Skip to main content

Íbúinn 11. desember 2014

Page 1

Reikningar Nótubækur Eyðublöð Fjölritunar- og útgáfuþjónustan s: 437 2360

Spennandi tónleikar í kvöld Félagarnir Garðar Cortes og Robert Sund halda spennandi tónleika í Landnámssetrinu í kvöld, fimmtudag, kl. 20:30 Garðar Cortes er vel þekktur hér heima sem frumkvöðull á sviði tónlistar, en einnig alþjóðlega þekktur óperusöngvari og hljómsveitarstjóri. Robert Sund er alþjóðlega þekktur hljómsveitarstjóri kórstjóri og tónskáld. Þeir Garðar og Robert hafa unnið saman í fjölda ára, gefið út hljómdiska og haldið tónleika bæði hér heima og erlendis. Lagavalið endurspeglar ylinn, tilfinningarnar og eldmóðinn sem einkennt hefur samstarf þeirra félaga gegnum árin. Þeir flytja uppáhaldslögin sín, alþjóðlegar söngperlur og þekkt og vinsæl íslensk lög af léttara taginu. Aðgangseyrir er kr 2.000.

ÍBÚINN

frétta- og auglýsingablað

40. tbl. 9. árgangur

11. desember 2014

Fjölskyldan býður á jólatónleika Fjölskylda úr Borgarnesi mun halda jólatónleika í Borgarneskirkju kvöldið fyrir þorláksmessu - mánudagskvöldið 22. desember nk. kl. 21:00. Aðgangur verður ókeypis og allir velkomnir en þetta er þriðja árið sem fjölskyldan stendur fyrir sams konar viðburði. Þetta eru hjónin Theodóra Þorsteinsdóttir og Olgeir Helgi Ragnarsson ásamt dætrum þeirra, Sigríði Ástu og Hönnu Ágústu. Undirleik annast Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Theodóra er skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar, söngkennari og söngkona. Hún stundaði söngnám í Söngskólanum í Reykjavík, Vínarborg og á Ítalíu og hefur víða komið fram sem söngkona. Olgeir Helgi stundaði m.a. söngnám við Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Systurnar eru

báðar í söngnámi hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur við Söngskólann í Reykjavík. Sigríður Ásta lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð í vor og sótti söngtíma í Vínarborg í sumar. Hún stefnir á söngnám erlendis næsta ár. Hanna Ágústa er á þriðja ári í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Fjölskyldan hefur tekið virkan þátt í menningar- og sönglífi í héraðinu og tók m.a. öll þátt í óperunni Sígaunabaróninn sem sýnd var í Gamla mjólkursamlaginu við góðar undirtektir. Ingibjörg er uppalin á Hvanneyri og Borgfirðingum að góðu kunn. Hún var á árum áður píanókennari við Tónlistarskóla Borgarfjarðar ásamt því að vera kórstjóri og meðleikari í héraðinu en býr nú í Hafnarfirði.


Viðburðadagatal

BARNAHORNIÐ

fi 11/12-19:15 „Fjósið“; Skallagrímur - ÍR fi 11/12-20:00 Hjálmakl.; Rocky Horror fi 11/12-20:30 Landnámssetur; Tónleikar Garðars Cortes og Roberts Sund fö 12/12-20:00 Félagsbær; Félagsvist la 13/12 11-16 Selsskógur; Jólatrjáasala la 13/12 12-16 Grafarkotsskógur; Opinn jólatrjáa dagur Bjsv. Heiðars su 14/12-11:00 Borgarneskirkja; Aðventuhátíð barnanna su 14/12 11-16 Selsskógur; Jólatrjáasala su 14/12 12-16 Grafarkotsskógur; Opinn jólatrjáa dagur Bjsv. Heiðars su 14/12 12-16 Reykholtsskógur; Opinn jólatrjáa dagur Skógræktarfélagsins su 14/12-14:00 Borg á Mýrum; Messa Annað í gangi: AA Gunnlaugsg. 21 þri 20.10 la 11.00 Al-Anon Gunnlaugsg. 10 fi 20.10 Börn í 100 ár í Safnahúsi 13-17 alla daga Edduv. þr-fi 16-20.30 fö 16-01 la 12-20:30 Golfklúbbur; innipútt fyrir eldri borgara þriðjud. og fimmtudaga kl. 14.00 Heiðarborg; sund 60 og eldri; fi 11-11.50 Íþróttamiðst.Bgn. Boccia lau 11-12 Landbúnaðarsafnið fi-fö-lau 13-17 Landnámssetur opið daglega 10-21 Laxárbakki opið alla daga 10-22 Ljómalind sveitamarkaður fö-su 13-18 Nytjamarkaður Brákarey lau. 12-16 Páll á Húsafelli opið eftir samkomulagi RKÍ fatabúð Bgn o. fö 12-18 & lau 12-15 Safnahús Borgarfjarðar alla daga 13-17 Samgöngusafnið þri 19-22 lau 13-17 s. 862 6223 & 692 5201 Snorrastofa sýningar alla daga 10-18 Ullarselið opið fi-fö-lau 13-17 Veiðisafnið Ferjukoti eftir samkomulagi Þórisstaðir húsdýragarður opið 10-17

ÍBÚINN frétta- og auglýsingablað

Netfang: olgeirhelgi@islandia.is Útgefandi: Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Ritstj. og áb.: Olgeir Helgi Ragnarsson Íbúanum er dreift með Íslandspósti á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmer 301, 310, 311, 320 & 356. Upplagið er 2.000 eintök. Íbúinn kemur að jafnaði út á fimmtudögum. Auglýsingasími: 437 2360

Jólasveininn langar að komast í frí. Finndu leiðina í gegn um völundarhúsið. Góða skemmtun!

Jólatrjásala í Skorradal Jólatrjásala verður í Selskógi í Skorradal laugardaginn 13. og sunnudaginn 14. desember opið kl 11-16


1.549 kr.

1.595 kr.

2.495 kr.

Bearnaise-borgari

9" pizza

16" pizza

franskar, lítið Kit Kat og gosglas

með 2 áleggjum og gosglas

með 3 áleggjum og franskar

Veitingatilboð 2.795 kr.

Fjölskyldutilboð 8 kjúklingabitar, franskar og salat

N1 Borgarnesi Sími: 440 1333

1.395 kr.

1.495 kr.

Ostafylltar brauðstangir

Kjúklingaborgari

með sósu

franskar og gosglas

Opið:

Alla daga 08:00-23:00 Grillið opið 11:00-22:00


Ertu að velta jólakortunum fyrir þér?

Við prentum persónuleg jólakort Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Kveldúlfsgötu 23 - Borgarnesi sími 437 2360 / 893 2361 Netfang: olgeirhelgi@islandia.is

Hágæðaprentun í vönduðum prentvélum Innbinding að þínum óskum

Eru útgáfumálin að kaffæra þig?

Léttu þér lífið Við prentum skýrslurnar fyrir þig

Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Kveldúlfsgötu 23 - Borgarnesi sími 437 2360 / 893 2361 Netfang: olgeirhelgi@islandia.is

Hágæðaprentun í vönduðum prentvélum Innbinding að þínum óskum


/¯ćDQG RSQDU ¯ %RUJDUQHVL

Lífland kynnir nýja reiðvöru- og búrekstrarverslun að Borgarbraut 55, Borgarnesi (áður efnalaugin). Verslunin verður rekin af Gunnfríði Harðardóttur sem KHIXU UHNL² Knapann um árabil. Reiðfatnaður og mél, bætiefni, valdar fóðurvörur og gæludýravörur á sérstöku opnunartilboði. Verslunin opnar kl. 12 fimmtudaginn 11. desember. Allir velkomnir, heitt á könnunni og Guffý tekur vel á móti ykkur.

Lífland söluráðgjöf Sími 540 1100

Lynghálsi, Reykjavík lifland@lifland.is

Lónsbakka, Akureyri www.lifland.is

Efstubraut, Blönduósi Borgarbraut, Borgarnesi


Jólaútvarp Óðals er í fullum gangi þessa dagana en útsendingar standa út morgundaginn, föstudaginn 12. desember. Hér eru þeir Þorgeir Þorsteinsson og Snæþór Bjarki Jónsson í stúdíóinu. Útsendingar nást á FM 101,3 en einnig er slóð á útsendinguna á forsíðunni á heimasíðu Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is. Mynd: Olgeir Helgi

Láttu vita af þér! - Auglýsing í Íbúanum kemst til skila Auglýsingasími: 437 2360

Íbúðir til leigu næsta sumar Menntaskóli Borgarfjarðar og Nemendagarðar MB leita eftir tilboðum í leigu á tveimur íbúðum að Brákabraut í Borgarnesi. Leigutímabilið hefst 10. júní 2015 og lýkur 15. ágúst 2015. Íbúðirnar myndu henta ferðaþjónustuaðilum til áframleigu. Um er að ræða tvær bjartar og rúmgóðar íbúðir á jarðhæð við Brákarbraut 8. Íbúðirnar leigjast með húsgögnum.

Tilboðið skal sendast til Nemendagarða MB, Borgarbraut 54, 310 Borgarnes. í síðasta lagi 20. janúar 2015. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Helgu Karlsdóttur í síma 4337700.

MENNTASKÓLI BORGARFJARÐAR


DAGATÖL MEÐ ÞÍNUM MYNDUM

Sigurður Oddsson verðlaunahafi ásamt Helgu Björk verkefnisstjóra SMV, Guðrúnu Lárusdóttur formanni stjórnar SMV og Signý Jóhannesdóttur formanni Stéttarfélags Vesturlands og stjórnarmanni SMV. Mynd: SMV

- gjöf sem gleður -

Borgnesingur fyrirmynd Árlega tilnefnir Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ,,fyrirmynd í námi fullorðinna“ en það er einstaklingur sem þykir hafa skarað fram úr. Að þessu sinn hlaut viðurkenninguna Borgnesingurinn Sigurður Oddsson sem er verðugur fulltrúi þeirra sem stundað hafa nám við Símenntunarmiðstöðina á Vesturlandi (SMV). Sigurður lauk grunnskóla á Ísafirði en féll í öllu nema stærðfræði. Hann reyndi oft að fara í nám en gekk illa. Í ljós kom síðar að hann er les- og skrifblindur með hljóðkerfisvillu. Fyrir nokkrum árum sótti hann náms- og starfsráðgjöf til SMV og fór í kjölfarið í nám sem kallast ,,Skref til sjálfshjálpar” og er ætlað þeim sem eru með lestrarörðugleika. Í framhaldinu fór Sigurður að vinna í Norðuráli þar sem hann stundaði nám í Stóriðjuskólanum. Nú er hann að læra vélvirkjun í helgarnámi hjá FVA og stefnir á að ljúka framhaldsnámi í Stóriðjuskólanum. Sigurður er gott dæmi um þrautseigju og dugnað, hann hefur sýnt það að ekki þarf að gefast upp þótt móti blási.

Júní 2014 S

M

1

2

8

9

Ágúst 2014

Þ

M

F

F

L

3

4

5

6

7

Júlí 2014

10 11 12 13 14

15 16 17 18 19 20 21

S

M

Þ

M

F

3

4

5

6

7

F

L

1

2

8

9

10 11 12 13 14 15 16

22 23 24 25 26 27 28

17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

29 30

S

M

Þ

M

F

F

L

1

2

3

4

5

6

7

8

9

10

11

12

13

14

15

16

17

18

19

20

21

22

23

24

25

26

27

28

29

30

31

31

Sendu okkur uppsett dagatal eða myndirnar og við setjum það upp fyrir þig og afhendum þér tilbúið vegg- eða borðdagatal með þínum myndum Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Sími: 437 2360 Netfang: olgeirhelgi@islandia.is


Vilt þú fara út í skóg og höggva þitt eigið jólatré?

Skógræktarfélag Borgarfjarðar og Björgunarsveitin Heiðar standa fyrir opnum dögum sem hér segir: Björgunarsveitin Heiðar mun standa vaktina í Grafarkoti í Stafholtstungum laugardaginn 13., sunnudaginn 14. og laugardaginn 20. desember kl 12-16. Það er aldrei að vita nema þeir lumi á einhverju góðgæti handa gestum skógarins. Sunnudaginn 14. desember munu félagar í Skógræktarfélagi Borgarfjarðar standa vaktina í Reykholti í Reykholtsdal kl 12-16. Í Reykholti verður sjóðheitt kakó, ketilkaffi og piparkökur í boði fyrir gesti skógarins.

Eitt verð 6.500 krónur, engir kortaposar. Með því að velja borgfirskt jólatré styrkir þú skógræktar- og björgunarsveitastarfið í Borgarfirði.

Fyrir hvert selt jólatré getur skógræktarfélagið gróðursett 30-40 ný tré í útivistarskóga sína, sem opnir eru allan ársins hring.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Íbúinn 11. desember 2014 by Íbúinn - Issuu