Reikningar Nótubækur Eyðublöð Fjölritunar- og útgáfuþjónustan s: 437 2360
ÍBÚINN
frétta- og auglýsingablað
20. tbl. 9. árgangur
28. maí 2014
Viðburðadagatal mi 28/5-18:00 Borgarnes; Kvennareið mi 28/5-20:00 UMSB-ganga; Hallarmúli fi 29/5-18:00 Skallagrímsgarður; Lotta sýnir Hróa hött o.fl. ævintýri. fi 29/5-20:00 Borgarneskirkja; Guðsþjónusta á 55 ára vígsluafmæli kirkjunnar fi 29/5-21:00 Landnámssetur; Birgir og Borgfjörð, vortónleikar Tónlistarfélagsins fö 30/5-20:00 Landnámssetur; Einar Kárason segir frá íslenskum hetjum la 31/5-13:00 Þinghamar; kosningakaffi mi 4/6-20:00 UMSB; Gönguæfing Birting viðburða er án endurgjalds og tímasetningar ekki sannreyndar
ÍBÚINN
frétta- og auglýsingablað Netfang: olgeirhelgi@islandia.is Útgefandi: Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Ritstj. og áb.: Olgeir Helgi Ragnarsson
Vortónleikar Tónlistarfélagsins Hljómsveitin Borgfjörð leikur fjölbreytta djass- og dægurlagatónlist á vortónleikum Tónlistarfélags Borgarfjarðar í Landnámssetrinu 29. maí nk. kl. 21.00. Aðgangseyrir er 1500 krónur, 1000 krónur fyrir eldri borgara og frítt fyrir meðlimi í Tónlistarfélagi Borgarfjarðar. Hljómsveitina skipa söngkonan Aldís Fjóla Borgfjörð, Birgir Bragason bassi, Birgir Þórisson hljómborð, Friðrik Jónsson gítar, Halldór Sveinsson fiðla og Ingi Björn Róbertsson trommur. Sérstakur gestur á tónleikunum verður gítarleikarinn Gunnar Ringsted.
Vígsluafmæli Borgarneskirkju Á uppstigningardag, 29. maí verður guðsþjónusta í Borgarneskirkju kl. 20.00. Minnst er 55 ára vígsluafmælis kirkjunnar. Organisti Steinunn Árnadóttir. Prestur Þorbjörn Hlynur Árnason. Verið öll velkomin.
ÚTBOÐ Á SKÓLAAKSTRI Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í skólaakstur við grunnskóla í Borgarbyggð og akstur í tómstundastarf skólaárin 2014-2015 og 2015-2016. Um er að ræða skólaakstur innanbæjar í Borgarnesi, ein leið úr dreifbýli að Grunnskólanum í Borgarnesi, tvær leiðir að Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi og tómstundaakstur frá Varmalandi í Borgarnes. Gerður verður samningur um hverja leið fyrir sig. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, á skrifstofutíma. Tilboðum skal skilað á sama stað í lokuðu umslagi, þannig merktu: „Útboð skólaaksturs við grunnskóla í Borgarbyggð skólaárin 2014-2015 og 2015-2016“ ásamt nafni og aðsetri bjóðanda. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, mánudaginn 16. júní 2014 kl. 14:00, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Eiríkur Ólafsson skrifstofustjóri
AUGLÝSING UM SKIPAN Í KJÖRDEILDIR Í BORGARBYGGÐ Við sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 31. maí 2014 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (menntaskólanum) í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár. Kjörfundur hefst kl. 9,oo og lýkur kl. 22,oo Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 22,oo Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals og Reykholtsdals. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 22,oo Vinsamlega athugið mismunandi tíma á lokun kjördeildanna. Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað. Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi. Sími hennar er 433-7705. Talning atkvæða fer fram í Hjálmakletti þegar öllum kjörstöðum hefur verið lokað. Kjörstjórn Borgarbyggðar