Reikningar Nótubækur Eyðublöð Fjölritunar- og útgáfuþjónustan s: 437 2360
ÍBÚINN
frétta- og auglýsingablað
4. tbl. 10. árgangur
29. janúar 2015
Mjög spennandi leikir framundan
Á myndinni sjást þeir Sigtryggur Arnar Björnsson og Daði Berg Grétarsson leikmenn Skallagríms, en framundan eru tveir gríðarlega spennandi heimaleikir þar sem búast má við því að sjá fjölmarga leikmenn Skallagríms fara á kostum. Mynd: Ómar Ragnarsson
Tveir stórleikir eru framundan í körfunni hjá Skallagrími. Úrvalsdeildarliðið leikur undanúrslitaleik á heimavelli gegn Stjörnunni sunnudaginn 1. febrúar nk. í Powerrade bikarkeppninni í körfuknattleik karla. Vinni Skallagrímur þennan leik er liðið komið í úrslit bikarkeppninnar og mun annað hvort leika gegn KR eða Tindastóli. Finnur Jónsson sem tók við sem þjálfari Skallagríms um áramótin segir liðið hafa einu sinni áður komist jafn langt, eða í undanúrslit Bikarkeppninnar en það var árið 2007. „Við erum bara að hugsa um leikinn á fimmtudagskvöldið en stemningin er frábær hjá liðinu. Allt tip top,“ segir hann aðspurður um stöðuna.
RAFGEYMAR!
Brákarbraut 5 - Borgarnesi sími 437 1300
Það er nefnilega líka mikilvægur leikur hjá Skallagrími í kvöld þegar liðið mætir Haukum í Dominosdeildinni. Sá leikur verður einnig á heimavelli Skallagríms í Borgarnesi. Það er því mikil veisla fyrir körfuboltaáhugamenn þessa dagana, tveir æsispennandi heimaleikir á fjórum dögum.
VETRARFRÍ Við verðum í fríi 3.-17. febrúar nk. Íbúinn kemur því ekki út 5. og 12. febrúar
Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Borgarnesi - s: 437 2360
ÍBÚINN frétta- og auglýsingablað
Seljum YUASA rafgeyma í flestar gerðir fólksbíla og jeppa.
Frí rafgeyma prófun og ísetning.
Viðburðadagatal fi 29/1-19:15 Íþróttamiðstöðin Bgn. eða „Fjósið“; Skallagrímur-Haukar í Dominos deildinni í körfubolta karla fi 29/1-20:30 Logaland; Íbúafundur, fjárhagsáætlun Borgarbyggðar o.fl. fö 30/1-9:00 Hjálmaklettur; Framtíð háskóla í Borgarbyggð - ráðstefna fö 30/1-20:00 Félagsbær; félagsvist su 1/2-19:15 Íþróttamiðstöðin Bgn. eða „Fjósið“; Undanúrslitaleikur: SkallagrímurStjarnan í bikarkeppni körfubolta karla má 2/2-20:00 Snorrastofa; Hirðmaðurinn Snorri og Skúli jarl, hertogi og kóngur Annað í gangi: AA Gunnlaugsg. 21 þri 20.10 la 11.00 Al-Anon Gunnlaugsg. 10 fi 20.10 Blómab. má-fi 11-19, f-l 11-22, s 13-18 Börn í 100 ár í Safnahúsi 13-17 alla daga Edduv. fi 17-20.30 fö 17-01 la 12-20:30 Flandri hlaupaæf. má & fi 17.30 - la 10.00 Golfklúbbur; innipútt fyrir eldri borgara þriðjud. og fimmtudaga kl. 14.00 Heiðarborg; sund 60 og eldri; fi 11-11.50 Íþróttamiðst.Bgn. Boccia lau 11-12 Landbúnaðarsafnið fi-fö-lau 13-17 Landnámssetur opið daglega 10-21 Laxárbakki opið alla daga 10-22 Ljómalind sveitamarkaður fö-su 13-18 Nytjamarkaður Brákarey lau. 12-16 Páll á Húsafelli opið eftir samkomulagi Rauði-krossinn fatabúð Borgarnesi opin fi 15-18, fö 14-18 & lau 12-15 Safnahús Borgarfjarðar alla daga 13-17 Samgöngusafnið þri 19-22 lau 13-17 s. 862 6223 & 692 5201 Snorrastofa sýningar alla daga 10-18 Ullarselið opið fi-fö-lau 13-17 Birting viðburða er án endurgjalds og tímasetningar ekki sannreyndar
ÍBÚINN frétta- og auglýsingablað
Netfang: olgeirhelgi@islandia.is Útgefandi: Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Ritstj. og áb.: Olgeir Helgi Ragnarsson Íbúanum er dreift með Íslandspósti á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmer 301, 310, 311, 320 & 356. Upplagið er 2.000 eintök. Íbúinn kemur að jafnaði út á fimmtudögum. Auglýsingasími: 437 2360
BARNAHORNIÐ
Hvernig kemstu inn að miðju?
Eins og sjá má skemmtu þátttakendur í fyrsta samlestri sér konunglega þegar Barið í brestina var lesið yfir í fyrsta sinn. Það má því búast við skemmtilegri sýningu í vetur. Mynd: Olgeir Helgi
Stemning hjá Leikdeildinni Það er óhætt að segja að það hafi verið mikil og góð stemning að undanförnu hjá Leikdeild Umf. Skallagríms en æfingar eru hafnar á söng- og gleðileiknum Barið í brestina eftir Guðmund Ólafsson. Mikill áhugi var á starfi deildarinnar en metæfing var á fyrsta samlestur á verkefni - alls
mættu 32 áhugasamir leikarar og tæknimenn auk leikstjóra. Í fyrravetur sýndi Leikdeildin söng- og gleðileikinn Stöngin inn við gríðargóðar undirtektir, en Guðmundur Ólafsson er einnig höfundur þess. Frumsýning er áætluð í byrjun mars en leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson.
Sjáum um alla þætti útfara á Vesturlandi og víðar. Sími: 898-9253 / 437-1783
ÚTFARARÞJÓNUSTA BORGARFJARÐAR
Deilt á bratta hækkun fasteignagjalda Á fjölsóttum íbúafundi sem Borgarbyggð boðaði til í Hjálmakletti síðasta mánudagskvöld kom fram nokkur gagnrýni á hækkun fasteignagjalda hjá sveitarfélaginu. Beindist gagnrýnin sérstaklega að því hve mikil hækkunin væri í einu lagi. Kolfinna Jóhannesdóttir sveitarstjóri fór rækilega yfir fjármál Borgarbyggðar og skýrði vel fyrir fundarmönnum hvernig staða sveitarfélagsins væri. Samkvæmt reglum um fjárreiður sveitarfélaga er bannað að reka sveitarfélag með tapi á hverju þriggja ára tímabili. Uppsafnað tap Borgarbyggðar á árunum 2013 og 2014 lagði þær skyldur á herðar sveitarfélagsins að skila árinu 2015 með amk 60 milljóna króna hagnaði. Sagði Kolfinna að eftir á að hyggja hefði verið betra að fara þá leið að hækka fasteignagjöldin fyrr. Þá hefði hækkunin etv. ekki þurft að vera jafn brött nú. Farið hefur verið í hagræðingaraðgerðir, m.a. uppsagnir yfirvinnu og breytingar á akstursfyrirkomulagi ásamt beinum uppsögnum starfsmanna sveitarfélagsins en það hefur ekki dugað til. Þegar ljóst var að markmið um hagnað næðist ekki hafði sveitarstjóri frumkvæði að því að tilkynna eftirlitsstofnun með fjármálum sveitarfélaga um stöðuna. Á fundinum kynnti Sigurður Guðmundsson einnig nýjan íþrótta- og tómstundaskóla. Sambærilegir fundir voru auglýstir í Lyngbrekku í gærkvöldi og Logalandi í kvöld.
DAGATÖL MEÐ ÞÍNUM MYNDUM - gjöf sem gleður -
Ágúst 2014
Júní 2014 S
M
Þ
M
F
F
L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Júlí 2014
10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
S
M
Þ
M
F
3
4
5
6
7
F
L
1
2
8
9
10 11 12 13 14 15 16
22 23 24 25 26 27 28
17 18 19 20 21 22 23
29 30
24 25 26 27 28 29 30
S
M
Þ
M
F
F
L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
31
Sendu okkur uppsett dagatal eða myndirnar og við setjum það upp fyrir þig og afhendum þér tilbúið vegg- eða borðdagatal með þínum myndum Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Sími: 437 2360 Netfang: olgeirhelgi@islandia.is
Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta: Dreifibréf - Boðsbréf
AUGLÝSING UM BREYTTAN AFGREIÐSLU- OG SÍMATÍMA SKRIFSTOFU BORGARBYGGÐAR
Reikningseyðublöð Ritgerðir - Skýrslur Stimplar Fjölritunar- og útgáfuþjónustan
Frá og með 01. febrúar 2015 verður afgreiðslu- og símatími skrifstofu Borgarbyggðar frá kl. 9,30 – 12,00 og 12,30 – 15,00 alla virka daga. Skrifstofustjóri
Borgarnesi - s: 437 2360
ÍBÚINN fer inn á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmerum 301, 310, 311, 320 og 356
Láttu vita af þér! - Auglýsing í Íbúanum kemst til skila Auglýsingasími: 437 2360