• Fimmtudagurinn 21. janúar 2016 • 3. tölublað • 37. árgangur
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM VÍKURFRÉTTAMYND / PÁLL KETILSSON
Lýstu vanhæfi vinstri hægri n Bæjarfulltrúar í Garði lýstu sig vænhæfa í tveimur málum sem tekin voru til umfjöllunar á síðasta fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Garðs. Í öðru málinu lýsti Jónína Holm, bæjarfulltrúi minnihlutans, sig vanhæfa í máli sem snýr að erindi Umboðsmanns Alþingis um Gerðaskóla. Jónína er starfsmaður skólans. Málið varðar ráðningu í stöðu innan Gerðaskóla en málið er í vinnslu hjá bæjarstjóra og niðurstaða er ekki komin fram í málinu. Bæjarráð afgreiddi málið á dögunum og var sú afgreiðsla samþykkt með 6 atkvæðum í bæjarstjórn en Jónína Holm lýsti yfir vanhæfi og tók hvorki þátt í afgreiðslu né umræðu um málið. Í hinu málinu lýsti Gísli Heiðarsson, bæjarfulltrúi meirihlutans, vanhæfi í afgreiðslu á umsókn um lóð undir hótel á Garðskaga. Gísli er einn af eigendum GSE ehf sem sótt hefur um lóð undir hótelbyggingu á svæði á Garðskaga sem nýlega var deiliskipulagt undir hótel- og ferðaþjónustu. Afgreiðsla Skipulags- og byggingarnefndar Garðs var samþykkt af bæjarstjórn með 6 atkvæðum en Gísli lýsti yfir vanhæfi og og tók hvorki þátt í umræðu né afgreiðslu málsins.
Þjófstörtuðu þorra í Keflavík n Þorranum var þjófstartað í íþróttahúsi Keflavíkur um sl. helgi þegar þar fór fram þorrablót Keflavíkur. Svipmyndir frá þorrablótinu eru í blaðinu í dag. Þorrinn hefst formlega á morgun, en þá er bóndadagur, og um helgina verður haldið risastórt þorrablót í Garðinum.
Klæðir fólkið sitt á Vatnsleysuströnd
Byggt af krafti n Framkvæmdir við kísilver United Silicon í Helguvík ganga vel. Þessa dagana er unnið að uppsetningu á rykhreinsibúnaði verksmiðjunnar í mannvirki sem rís hátt til himins í Helguvík. Vel á annað hundrað manna vinna að byggingu verksmiðjunnar sem tekur til starfa í sumar. Á næstu dögum verður byrjað að klæða byggingar sem verða í gráum lit. Til að átta sig á stærð mannvirkisins má benda fólki á iðnaðarmennina sem standa efst á byggingunni.
n Uppskriftir undir merkinu Mó a kot h af a notið mikilla vinsælda. Móakot er lítið býli á Vatnsleysuströnd sem nú er komið í eyði og á hönnuður uppskriftanna ættir sínar að rekja þangað. Margrét Halldórsdóttir er prjónakonan á bak við Móakots peysu uppskriftirnar sem notið hafa mikilla vinsælda eins og lesa má í VF í dag. // 6
Grindvíska atvinnuleikhúsið fær 7,5 milljón króna styrk n Grindvíska atvinnuleikhúsið, eða GRAL áhugafélag um leiklist, hlaut í vikunni 7,5 milljóna króna styrk frá mennta- og menningarmálaráðherra til uppsetningar á leikritinu Íslendingasögurnar 30/90/30. Stofnendur Grindvíska atvinnuleikhússins eru Grindvíkingarnir Bergur Þór Ingólfsson leikari og leikstjóri og Víðir Guðmundsson, leikari. Með GRAL leikur einnig Grindvíkingurinn Benedikt Gröndal. Þá hefur Guðmundur Brynjólfsson frá Hellum á Vatnsleysuströng skrifað nokkur þeirra verka sem GRAL hefur sett upp. Upphaf GRAL má rekja til þess þegar Bergur Þór og Víðir störfuðu saman sem leikarar við Borgarleikhúsið. Á milli æfinga og í kaffipásum grínuðust þeir með að stofna Grindvíska atvinnuleikhúsið þar sem þeir voru nú einu atvinnuleikararnir sem Grindavíkurbær hafði alið af sér. En öllu gríni
fylgir einhver alvara og veturinn 2008 fengu þeir Guðmund Brynjólfsson og Evu Völu Guðjónsdóttur til liðs við sig og settu upp einleikinn 21 manns saknað. Síðan þá hafa fleiri sýningar GRAL hópsins farið á fjalirnar og stöðugt bætist í hópinn af hæfileikaríkum listamönnum sem þó eiga ekki allir ættir að rekja til Grindavíkur.
Tveir Gerðaskólanemar meðal 40 bestu á landinu
l Í samræmdum prófum í stærðfræði í 4. bekk. Gerðaskóli var yfir meðaltali í fimm samræmdum prófum af þeim sjö sem tekin eru. Þar er miðað við hefðbundinn samanburð á meðaleinkunn skóla sem oftast er miðað við. Jóhann Geirdal, skólastjóri Gerðaskóla, vakti athygli á þessu á fundi skólanefndar Sveitarfélagsins Garðs á dögunum. „Það er vissulega gott að vera yfir meðaltali í meirihuta prófana. Það sem ég var líka að vekja athygli á var hvað mætti lesa út úr frammistöðu einstakra nemenda, það er það sem skiptir auðvitað mestu máli,“ segir Jóhann í samtali við Víkurfréttir. Hann segir niðurstöður samræmdu prófana í haust gefa fulla ástæðu til bjartsýni. Meðaleikunn skólans var yfir landsmeðaltali í 5 prófum af 7 sem er góður árangur. Bestur var hann í 4.
bekk þar sem nemendur Gerðaskóla voru yfir meðaltali í báðum prófunum. Jóhann segir sérstaklega ánægjulegt að skoða stærðfræðina í 4. bekk. „Til dæmis má nefna að tveir af okkar nemendum voru með raðeinkunina 99, sem þýðir að þeir voru í efsta hundraðshluta allra þeirra nemenda á landinu sem tóku prófið. Það má ætla að um 4000 nemendur hafi tekið prófið og eru þessir tveir nemendur okkar því meðal 40 hæstu nemenda á landinu, auk þess var einn nemandi með raðeinkunnina 98 þ.e. meðal 80 hæstu nemenda á landinu. Það er ótrúlega góður árangur sem hvaða skóli sem er getur verið stoltur af. Þetta sýnir að vel hefur verið farið yfir námsefnið og kennslan hefur verið góð.“
Tugir milljarða í uppbyggingu l Ásbrú mikilvæg til að byggja upp góða samfélagsblöndu l Gagnaver Verne stærsta einstaka fjárfestingin
FÍTON / SÍA
Tugum milljarða hefur verið varið í uppbyggingu á Ásbrú á þeim tæpa áratug sem liðinn er frá því Varnarliðið fór frá Keflavíkurflugvelli haustið 2006. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, hefur varið um 7 milljörðum króna á þessu tímabili. Stærsta einstaka fjárfestingin er hinsvegar gagnaver Verne sem nemur tugum milljarða og á síðasta
einföld reiknivél á ebox.is
ári tryggði fyrirtækið sér um 13 milljarða króna til frekari uppbyggingar. Það er næst stærsta tæknifjárfestingin á Norðurlöndum í fyrra. Annað stórt fjárfestingarverkefni í miklum vexti á Ásbrú er líftæknifyrirtækið Algalíf og þá er að vænta frekari frétta af uppbyggingu gagnavera á Ásbrú á þessu ári. Í dag eru fimm af sex gagnaverum á Íslandi á Ásbrú.
Kj ar t an Þ ór E i r í k s s on , f r am kvæmdastjóri Kadeco, segir í viðtali í Víkurfréttum í dag að að Ásbrú sé mikilvæg nú þegar mikil aukning er í ferðaþjónustu á svæðinu: „Ég held, ef við horfum til flugvallarins og mikillar aukningar í ferðaþjónustu, að við verðum að horfa til þess að samfélagið verði ekki einsleitt og hvaða aðra þætti við þurfum líka að leggja áherslu á til
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
að byggja upp góða samfélagsblöndu og sterkt og gott samfélag til langs tíma litið. Ég held klárlega að þetta verkefni sem hér er og sú vinna sem er búin að vera hér á Ásbrú á undanförnum árum að hún eigi eftir að eiga stóran þátt í því að samfélagsblöndun á svæðinu verði með jákvæðum hætti.“ Viðtalið við Kjartan er í miðopnu blaðsins í dag.
Allar íbúðir í nýtingu á næstu tveimur árum n Í dag eru um 70% af fjölskylduhúsnæði á Ásbrú í nýtingu og 30% af einstaklingshúsnæði. Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, gerir ráð fyrir að á næstu tveimur árum verði allt fjölskyldu- og einstaklingshúsnæði komið í nýtingu. Í viðtali við Víkurfréttir í dag segir Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Kadeco, að gert sé ráð fyrir nokkrum ólíkum hlutverkum fyrir einstaklingshúsnæðið eins og lesa má í blaðinu í dag.
2
VÍKURFRÉTTIR
KENNARI ÓSKAST -Í HEIÐARSKÓLA
Staða kennara í íslensku á unglingastigi er laus til umsóknar. Um er að ræða 100% starf. Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2016. Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf, þar sem einnig er að finna upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur. Umsókn fylgi afrit af leyfisbréfi og ferilskrá ásamt upplýsingum um meðmælendur. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sóley Halla Þórhallsdóttir skólastjóri í síma 8944501 eða 4204500. Í Heiðarskóla er öflugur starfsmannahópur og þar er lögð áhersla á metnaðarfullt skólastarf. Unnið er eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar.
FORNLEIFAR Á REYKJANESSKAGANUM FRÆÐSLUFUNDUR Í DUUS-SAFNAHÚSUM
Byggðasafn Reykjanesbæjar og Sögufélag Suðurnesja halda fræðslufund fimmtudaginn 21. janúar kl 17:30 í Bíósal. Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur fjallar um fornleifar á Reykjanesskaganum sem einstaka auðlind um sögu svæðisins frá landnámi fram á okkar daga. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir, kaffi á könnunni.
OPINN FUNDUR Fimmtudaginn 28. janúar nk. kl. 20:00 mun bæjarstjóri halda opinn fund um fjármál Reykjanesbæjar í Bergi, Hljómahöll. Farið verður yfir útkomuspá 2015, nýsamþykktar fjárheimildir 2016 og stöðuna almennt. Einnig verður fundarmönnum gefinn kostur á að spyrja spurninga og þeim svarað eins og kostur er.
MENNINGASTYRKIR Menningarráð Reykjanesbæjar auglýsir eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð Reykjanesbæjar. 1. Þjónustusamningar við menningarhópa Ákveðnu fjármagni verður varið í þjónustusamninga við menningarhópa í bæjarfélaginu árið 2016 eins og verið hefur. 2. Verkefnastyrkir til menningartengdra verkefna Ákveðnu fjármagni verður varið í verkefnastyrki á árinu 2016 sem miða að því að hægt verði að fá fjármagn til einstakra menningarverkefna sem standa muni bæjar búum til boða á árinu. Umsóknum skal skilað á netfangið menningarfulltrui@ reykjanesbaer.is eða á skrifstofu menningarfulltrúa á Tjarnargötu 12 fyrir 15. febrúar nk. Eyðublöð á vef bæjarins www.reykjanesbaer.is/thjonusta/menning/menningarstyrkir
INNILEIKJAGARÐURINN
fimmtudagur 21. janúar 2016
Nöfn hverfanna mikilvæg í markaðssetningu í ferðamennsku Súpufundur fyrir aðila í ferðaþjónustu var haldinn í Hljómahöll síðasta fimmtudag. Á dagskránni voru ýmis erindi og unnu fundargestir að hugmyndavinnu. Hrafnhildur Ýr Hafsteinsdóttir, verkefnastjóri ferðamála í Reykjanesbæ, fór yfir samtaka sýn á ferðaþjónustu þar sem áhersla yrði á að tala sama tungumál. Þar sagði Hrafnhildur skipta miklu máli hvaða orðfæri aðilar í ferðaþjónustu notuðu við kynningu á svæðinu. Hrafnhildur velti upp þeirri hugmynd að kynna hverfin fjögur sem mynda Reykjanesbæ; Keflavík, Njarðvík, Hafnir og Ásbrú með sinni sérstöðu og leggja áherslu á að þau væru í Reykjanesbæ. Með þeim hætti væri hægt að halda hverfanöfnunum inni en leggja jafnframt áherslu á nafnið Reykjanesbær. Þuríður Halldóra Aradóttir, verkefnastjóri Markaðsstofu Reykjaness, kynnti Mannamót 2016 sem markaðsstofur landshlutanna standa að og verður haldin í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli 21. janúar. Tilgangur Mannamóts er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir
Séð yfir Njarðvík og upp á Ásbrú.
ferðaþjónustuaðilum sem staðsett eru á höfuðborgarsvæðinu. Arnar Hafsteinsson, verkef nastjóri leiðsögunáms í ævintýraferðamennsku hjá Keili, kynnti námið sem unnið er í samstarfi við Thomson Rivers University í Kanada. Hugmyndir spruttu fram um hvernig nota mætti Reykjanesið í vettvangsnám en helstu hindranir eru að hér eru hvorki ár né jöklar, en hvort tveggja er mikilvægt í vettvangsnámi. Sjórinn og hraunið gætu hins vegar nýst. Eggert S. Jónsson, verkefnastjóri Reykjanes Geopark, fjallaði um jarð-
vanginn, UNESCO vottunina og sagði frá verkefnum tengdum jarðvanginum. Fram kom í máli Eggerts að sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir innan jarðvangsins gætu nýtt sér vottunina í kynningar- og markaðsskyni en hjá öðrum jarðvöngum í heiminum hefur það reynst til framdráttar. Þá er búið að gefa út kennsluefni um jarðvanginn fyrir leikskólabörn og fyrirhugað er að gefa út kennsluefni fyrir grunnskóla- og framhaldsskólanema. Reykjanesbær rekur Gestastofu jarðvangsins í Duus safnahúsum.
Undirbúa byggingu Suðurnesjalínu 2 ●●Landsnet semur við ÍAV um undirbúningsvinnu Landsnet hefur samið við Íslenska aðalverktaka um undirbúningsvinnu vegna byggingar Suðurnesjalínu, 220 kílóvolta (kV) háspennulínu frá Hraunhellu í Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartengis. Verkið felst í stórum dráttum í slóðagerð, jarðvinnu og byggingu undirstaðna en línuleiðin er rúmir 32 kílómetrar og verða möstrin alls 100 talsins. Undirbúningsvinnan hefst um leið og aðstæður leyfa og skal verkinu að fullu lokið fyrir septemberlok 2016. Áformað er að reisa línuna sumarið 2017 og tengingu ljúki á því ári. Undirbúningsvinna vegna Suðurnesjalínu 2 var boðin út í september 2015. Sjö buðu í verkið og átti ÍAV lægsta tilboðið að upphæð tæplega 320 milljónir króna en kostnaðaráætlun Landsnets hljóðaði upp á tæplega 390 milljónir. Útboð á eftirliti með undirbúningsvinnunni hefur einnig farið fram. Verkfræðistofan Hnit var með hagstæðasta tilboðið og hefur verið samið við hana um eftirlit með framkvæmdum við Suðurnesjalínu 2.
Brýnt að styrkja flutningskerfi raforku á Reykjanesi
Suðurnesjalína 2 er hluti af verkefninu Suðvesturlínur. Umhverfismat vegna framkvæmdanna var samþykkt með skilyrðum árið 2009 og í ársbyrjun 2011 var ákveðið að byrja á styrkingu flutningskerfisins á Suðurnesjum. Suðurnesjalína 1, sem nú þjónar svæðinu og rekin er á 132 kV spennu, er fulllestuð og jafnframt er öryggi kerfisins ófullnægjandi þar sem að-
eins er þessi eina tenging frá Reykjanesskaganum við meginflutningskerfi Landsnets. Framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 liggur fyrir frá sveitarfélögunum Grindavík, Hafnafjarðarbæ, Reykjanesbæ og Vogum og leyfi Orkustofnunar fyrir byggingu og rekstri línunnar. Í ársbyrjun 2014 heimilaði iðnaðar- og viðskiptaráðherra Landsneti að taka tiltekin landsréttindi á Reykjanesskaga eignarnámi, þar sem samningar höfðu ekki náðst við alla landeigendur, en kröfu um ógildingu eignarnámsheimildanna var hafnað af dómstólum. Nýja línan mun að miklu leyti fylgja núverandi Suðurnesjalínu 1 frá Hafnarfirði að Rauðamel, nema austast á svæðinu þar sem gert er ráð fyrir að hún liggi í nýju línubelti töluvert fjær núverandi byggð í Hafnarfirði. Landraski verður haldið í lágmarki og jafnframt er orðið við tilmælum sveitarfélaga á svæðinu og helstu fagstofnana um að reisa nýju línuna í núverandi mannvirkjabelti, þar sem fyrir eru Suðurnesjalína 1 og Reykjanesbraut.
Undirbúa stofnun Hollvinafélags Bjargarinnar
●●Treysta á að félagasamtök og fyrirtæki sýni samfélagslega ábyrgð og styrki starfsemina.
Innileikjagarðurinn verður opinn allar helgar út febrúar 2016 a.m.k. Opnunartíminn er 14.30 - 16.30. Bókanir fyrir afmælisveislur er á innileikjagardurinn@gmail.com. Fræðslusvið
Undirbúningsfundur að stofnun Hollvinafélags Bjargarinnar - geðræktarmiðstöðvar Suðurnesja var haldinn á mánudagskvöld. Í fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar er ekki gert ráð fyrir fjármagni til rekstrar Bjargarinnar eftir mitt ár og að óbreyttu mun henni því verða lokað. Að sögn Hannesar Friðrikssonar, áhugamanns um starfsemi Bjargarinnar, voru mjög góðar umræður á fundinum. „Það var algjör samstaða um að starfsemi Bjargarinnar væri ekki eitthvað sem bæjaryfirvöld né aðrir sem á fundinn mættu vilja að verði spöruð í burtu,“ segir hann. Á fundinum komu fram tillögur sem nú er unnið að. Samstaða náðist um að reyna til þrautar að tryggja áframhaldandi rekstur og treysta á félagasamtök og fyrirtæki að sýna samfélagslega ábyrgð í málinu. „Þetta gæti orðið fallegt málefni hjá okkur núna þegar illa árar og myndi
efla samstöðu í bænum,“ segir Hannes. Fimmtíu manna hópur ætlar að vinna saman að úrlausn málsins. Hannes kveðst mun bjartsýnni nú en áður um framtíð Bjargarinnar. „Mér sýnist viðhorfið vera það að leggjast á eitt og gera allt sem mögulegt er en það tekst ekki nema með ákveðni og baráttu.“ Björgin er endurhæfingarúrræði og athvarf þar sem fólki er veitt eftirfylgd eftir þörfum. Endurhæfingin er einstaklingsmiðuð, haldið er utan um endurhæfingaráætlanir, fylgst með mætingu og árangur metinn. Björgin á í samstarfi við geðteymi á HSS, geðsvið LSH, Samvinnu, félagsþjónustur sveitarfélaganna og fleiri. Björgin var opnuð árið 2005 og síðan þá hefur fjöldi þeirra sem þangað sækja þjónustu aukist jafnt og þétt.
Markhönnun ehf
Heilsu & lífsstílsdagar 21. jan. – 01. feb.
HEILSUKVÖLD NETTÓ MEÐ ÁSDÍSI GRASALÆKNI
Ásdís Grasalæknir heldur Heilsukvöld Nettó þriðjud. 26. jan. kl. 20:00 í Nettó Reykjanesbæ
Heilsu &
lífsstílsdagar
Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM HOLLUSTA AFSLÁTTUR
%
TT
Kókoshnetuolía
U
R
MACADUFT 300 G Úr sætri maca rótinni er unnið handhægt duft sem gefur bæði næringu og ljúffengt bragð í ýmiss konar rétti. Duftið er mjög ríkt af vítamínum og steinefnum og inniheldur 10% prótein. Macad. er frábært í þeytinga, hrákökur og búðinga.
FITNESS
2.798
1.479
nn?
r í mati Mamma, hvað e
KRÍL IN
Hveitigrasduft er þurrkað og malað með aðferðum sem tryggja sem hæst næringargildi í hverjum poka. Það inniheldur hágæða prótein og fjöldan allan af vítamínum, þ.á.m. hið dýrmæta K-vítamín. Margir hafaKaldpressuð/jómfrúar dásamað áhrif þess að neyta nýpressaðs hveitigrassafa á hverjum degi en ef Upplögð þú hefur ekki tök á því er•hægðarleikur í þeytinginn að bæta teskeið af hveitigrasdufti í vatn • í grautinn eða aðra drykki og • í baksturinn innbyrða þannig 2.199 þessa náttúrulegu • til að smyrja bökunarform næringarbombu.
Kaldpressuð/jómfrúar
1.649 kr
Bragð- og lyktarlaus
-
Klórella er blágrænn þörungur sem þekktur er fyrir næringarþéttni sína. Í þessum þörungi má finna mikið af þeirri næringu sem mannslíkaminn þarfnast auk þess sem klórellan inniheldur allar lífsnauðsynlegu amínósýrurnar. Duftið inniheldur 59 gr af próteini í hverjum 100 gr og færir líkamanum joð, D-vítamín og B12-vítamín sem annars er vandfundið í jurtaríkinu. Til að auka enn frekar upptöku 1.549 næringarinnar hafa frumveggir klórellunnar verið rofnir við Bragð- og lyktarlaus gerð duftsins.
BLAÐIÐ 1.649 ÚT ER KOMIÐ 2.199
1.162 kr
kr
Upplögð • þegar kókosbragðs er ekki óskað MACA SÚKKULAÐIEFTIRRÉTTUR • til steikingar á kjöti, fiski og grænmeti • til að poppa popp 1 avókadó 5 dropar vanillustevía • til 1/2 banani 1-2 msk kókósmjólkað smyrja bökunarform • út í te og kaffi 1-2 msk kakóduft eða vatn
1 tsk maca duft
ÁRNASYNIR
LÍFRÆNT
ÁRNASYNIR
Spirulína er einnig næringarríkur þörungur sem hefur verið vel þekktur sem heilsubætandi hráefni um áratugaskeið. Próteininnihald spirulínu er á bilinu 60-70% og hún inniheldur jafnframt ótal ensím, plöntunæringarefni, andoxunarefni, vítamín og steinefni, auk omega-3 og omega-6 fitusýranna. Gott er að nota spirulínu til skiptis á við klórellu eða nota báðar tegundir saman.
smá sjávarsalt ef vill
...FRÁ SV EIT TIL SJÁ VA R OFURTILBOÐ Í TÓLF DAGA!
ÁRNASYNIR
BARBECUE ARGENTÍNU
1.012 kr
KLÓRELLADUFT 200 G
a ég stundum fiskinn. Fiskinn topp r ti. Food Docto smátt söxuðu spína Náðu þér í
stu bækling í næ ttó verslun Ne
Allt maukað saman í blandara eða með töfrasprota.
g
bæklin nforest Foods
HOLLUSTA
KJÚKLINGABRINGUR
SPIRÚLÍNUDUFT 200 G
• í te og kaffi • til inntöku ein og sér, t.d. 1–2 msk daglega
Upplögð og njóta! þegar kókosbragðs við heituervatni ekki óskað 50 gr soðnar og afhýd Bara•bæta r 2 msk ósaltað smjö • til steikingar á kjöti, fiski og grænmeti tt innsluvél eðaHá • til að poppa popp matv í t skell Öllu er svo en ríflegur skammturprótein • til að smyrja bökunarform stappað. Þetta er Þegar stækka og frysta. hlutfall Hentar grænega • Nátt út í teúrul og kaffi hann má jafnvel gt fisk getur verið sniðu næringarríkt metisætum venja á barnið við svo grænmeti og auka af a meir og vegan* setja að með
KJÖT OG FISKUR
FAJITAS
1.679 kr
HVEITIGRAS DUFT 200 G
Upplögð • í þeytinginn Fullts •La í grautinn x og blómkálsmú af aða aldri) •(fráí baksturinn 9 mán0% 10 trefjum soðinn gufu • tilgrað lax smyrja bökunarform laus, t bein og leg roð ru 50 ttú ná da kryd án •eða í teofnb og akað kaffiur kálog sér, t.d. 1–2 soðið blóm •50 tilgrinntöku ein msk daglega dar kartöflur
974 kr
Kókoshnetuolía inniheldur hátt hlutfall
Það er heilbrigð skynsemi.
ríka fæðu er mikilvægt holla og næringar Að velja barni sínu gt. Barnið er að átta (oftast) skemmtile verkefni og um leið og viðbrögðin eru áferðum og brögðum nt grænmeti sig á hinum ýmsu hef ansi oft soðið lífræ Ég tleg. skrau kur til þess oft á tíðum sett í fallegar kruk og kað mau , di fram eftir nóttu öskur með tilheyran t atísk dram að framkalla mjög st svo svakalega kúga el jafnv r Bragð- og eins lyktarlaus ið hefu mín fyrir að andlitsgrettum. Barn ist mað skam að ég dauð Upplögð yfir hnossgætinu í hug að bjóða henni upp á þennan detta r sem er mikill hafa látið mér • þegar kókosbragðs er ekki óskað mánaða gamla dóttu sé 18 hrylling! Ég á sum ansi auðveldlega segja, hún kúgast • til steikingar aðgrænmeti á kjöti, er fiski og áferðarálfur. Það borða skyr í öll mál. hún di myn • til að poppaogpopp ef hún mætti ráða pabbi hennar seint - ákváðum við ga - og helst til of • til að smyrja Nýle m tökum en illa bökunarform jur skyrgámsins föstu kjöt. Fjölbreytt að taka matarven fisk og • út í te og kaffi hana til að borða fá að ið geng r hefu r matarvenjur fylgja miklu máli og góða mataræði skiptir þeirra er að þróast tíðina. Matarsmekkur börnum inn í fram að þróa með sér inu barn a hjálp að og því er mikilvægt Dóttir mín virðist mat. um og fjölbreytt smekk fyrir hollum drum sínum. Hún sammála okkur forel ðið að annað eitthvað minna vera fiski en nú var ákve við ð fúlsa rt tíð alla hefur því að stoppa millimálana NGUR KJÚKLINGABRI KJÚKLINGABRINGUR í boði . Fyrsta skrefið var Því væri ekki g á matmálstíma. svön vel væri tur á meðan og tryggja að hún mínú 20 um í ar li henn þurfti að dreifa athyg Það tókst. Frökenin2 að útbúa matinn. var verið var að klára en eftir að henni fyrstu við disknum hún fullan disk fúlsaði auðvitað í ekki í boði borðaði var ð anna að kipp af gert ljóst Móðurhjartað tók r. hliða til hér litla af uppskriftinni stu hverfa ofan í sjá alla þessa hollu hamingju við að ið mun betur að fá Síðan þá hefur geng þrjóska kroppinn. afinn voru einnig mat en amman og r. staða hana til að prufa nýjan alls svo sömu reglur giltu sett í prógrammið
1.299
1.109 kr
2.774 kr
Kaldpressuð/jómfrúar elskar Tobba Marinós Upplögð hollustu og krílið hennar af s • í þeytinginn nýtur góð • í grautinn • í baksturinn • til að smyrja bökunarform • í te og kaffi • til inntöku ein og sér, t.d. 1–2 msk daglega
HRÁKAKÓ 250 G Hrákakóið frá Rainforest Foods er lífrænt, lítið unnið, óristað og uppfullt af heilnæmri og mikilvægri næringu. Hrákakó inniheldur t.a.m. mikið af kalki og járni ásamt fjölda annarra steinefna, vítamína, hollra fitusýra og flavoníða. Það er því næringarríkara en hefðbundið bökunarkakó.
af lárinsýru. BYGGGRASSDUFT 200 G ACAIBERJADUFT 125 G KAKÓNIBBUR 300 G budduna. Njóttu þess að borða heilnæma og fjölbreytta fæðu sem er líka holl fyrir Bygg var hluti af fæðu Acai berin eru ljúffeng Kakóbaunirnar eru víkinganna og þykir enn í og sannkallaðar Það er heilbrigð skynsemi. hand-tíndar í Perú, brotnar dag kjarngóð og næringarnæringarbombur. Þau niður og látnar gerjast. rík fæða. Úr grasi byggsins hafa rutt sér til rúms Þannig dregur á náttúrulefást ógrynnin öll af vítasíðustu ár sem ein gan hátt úr römmu bragði mínum og steinefnum, vinsælasta heilsufæða kakóbaunanna. Þær eru m.a. kalki, magnesíum, vesturlanda og er afar svo hreinsaðar og þurfólínsýru og járni. vinsælt að nota þau rkaðar af kostgæfni svo Hér fæst frostþurrkað í drykki og grauta. afurðin haldi sem hæstu og malað bygggrasið Acai duft frá Rainforest næringargildi enda eru í handhægum umbúðum Foods er frostþurrkað kakónibbur sérlega ríkar svo auðvelt er að bæta með það að markmiði af andoxunarefnum og þessari frábæru næringu að viðhalda sem hæstu frábærar sem viðbót við hvaða drykk eða næringargildi í þeytinga, grauta morgungraut sem og bragðgæðum. 3.699 2.239 1.349 eða bakstur. hugurinn girnist.
Langar þig eitthvað syndsamlega ljúffengt til að grípa í? bita Veldu heilnæma snarlið frá Food Doctor og njóttu nærandi með skínandi hreinni samvisku.
2016
CHIA FRÆ 300 G Chia fræ eru talin hafa verið ein af uppistöðum mataræðis Aztekanna en hafa á síðustu árum orðið sífellt vinsælla hráefni meðal heilsumeðvitaðra Vesturlandabúa. Fræin innihalda ríkulegt magn af omega-3 og omega-6 fitusýrum í heilnæmu hlutfalli. Auk þess eru þau uppfull af vítamínum, steinefnum og amínósýrum.
2.099 kr
Kókoshnetuolía inniheldur hátt hlutfall af lárinsýru. Njóttu þess að borða heilnæma og fjölbreytta fæðu sem er líka holl fyrir budduna.
UMHVERFIÐ Tilboðin gilda 21. jan - 01. feb
RI G Kókoshnetuolía T N T BE RI NG Æ A N IL V Æ
„Heilnæmir valkostir í amstri dagsins!“
UPPBYGGING
AF HEILSU- OG ÖRUM LÍFSS Það erTÍLSV heilbrigð skynsemi.
Kókoshnetuolía inniheldur hátt hlutfall af lárinsýru. Njóttu þess að borða heilnæma og fjölbreytta fæðu sem er líka holl fyrir budduna.
25
LÁ
NETTÓ HEILL KJÚKLINGUR
MÍNÚTUSTEIK, snakki Náðu þér í Rai KJARNAFÆÐI NAUTA *Að undanskildu Mild Korma nar tó! FROSIN pin VERÐ ÁÐUR: 849 KR/KG 4.158 KR/KG ÁÐUR:Net VERÐstu m í næ ekki vegan og erku ikir tanntö mjólkurprótein sem inniheldurBle með uppskriftu KR/KG KR/KG EITT OFURTILBOÐ Á HVERJUM DEGI Í TÓLF DAGA. SKOÐAÐU (frá 9 mánaða aldri) TÖFLUNA HÉR AÐ NEÐAN TIL AÐ SJÁ HVAÐ ER Í BOÐI. HVERT TILBOÐ GILDIR Á TILGREINDUM DEGI EN AÐRA DAGA ni bana r ERU SÖMU kaðu VÖRUR Á 25% þros AFSLÆTTI. 1 vel 3 frosin jarðaber og ði nota (ég tir 2 dl ávex mangó) stoðmjólk 2 dl hreinn safi eða
764
3.742
FIMMTUDAGUR 21. JAN FÖSTUDAGUR 22. JAN Tilboð dagsins
LAUGARDAGUR 23. JAN
Tilboð dagsins
næst og maukað vel. Því Allt sett í blandara hún í íspinnaform og er blöndunni hellt fryst.
Tilboð dagsins
-121 KR
30%
AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR
Fjólubláir r tanntökupinna
fá börn til að ir punktar til að
ELLA’S LÍFRÆNN BARNAMATUR AFSLÁTTUR VERÐ ÁÐUR: 205 KR/PK (frá 12 mánaða aldri) er ÝSUBITAR ROÐ- & BEINLAUSIR, sem KR FROSNIR KR/PK k, fiturí er hún FROSIN rt en RAUÐSPRETTUF jógúLÖK,
Góð borða:
setningar áltímum. Góðar tíma • Hafa reglu á matm SALTFISKUR AÐ HÆTTI BÖRSUNGA ig við svefninn. máltíða hjálpa einn VERÐ ÁÐUR: 2.198 KR/KG ta. álsbi millim • Draga úr tíðni að neita því KR/KG annan mat er best sem í boði er. • Ef barnið biður um það ka smak að því aftur ur nokk blíðlega og bjóða tekið r getu fyrir barni • Að kynna nýjan mat
1.890
KRÍL IN
upp. skipti. Ekki gefast neyti ekki meira en börn yfir 9 mánaða drekka mikla • Mælt er með að örum á dag. Ef börn 0,5 lítra af mjólkurv og fæði ð getur orið rlyst mata úr mjólk dregur það of einhæft. gri reynslu og ð á minni persónule Þessi ráð eru bygg mér úti um. Fleiri sem ég hef orðið þeim upplýsingum fyrir ungabörn má ngu næri um ar góða upplýsing landlaeknir.is. meðal annars fá á
2 dl grísk VERÐ ÁÐUR: 1.098 KR/KG gott fyrir börn 2 dl frosin bláber KR/KG kókosmjólk (Lítið eða 1 dl möndlumjólk lesa . Ef hún er keypt skal mál að útbúa hana r eða aldi nokkuð syku vel hvort hún innih notað . Þú getur einnig annað óæskilegt stoðmjólk.) ni 1 vel þroskaður bana næst og maukað vel. Því Allt sett í blandara fryst. í íspinnaform og hún er blöndunni hellt
1.291 KR/KG
30% | 2.169 KR/KG
KR/KG
Tilboð dagsins
NETTÓ KJÚKLINAVÆNGIR VERÐ ÁÐUR: 398 KR/KG
25% | 299 KR/KG
MÖNDLUMJÓLK - 1L
ÁÐUR: FROSIN 499 KR/PK BEINLAUS, ÝSUFLÖK ROÐ- & VERÐ
KR/KG -121 | 149 KR/STK SJÁVARKISTANVERÐ ÁÐUR: 1.79830% | 349 KR/PK
ÝSA Í ÖSKJU, FROSIN - 2,27 KG KR VERÐ ÁÐUR: 3.998 KR/PK
1.494 KR/KG
1.585 KR/KG
MÁNUDAGUR 25. JAN
ÞRIÐJUDAGUR 26. JAN
Tilboð dagsins
Tilboð dagsins
40%
40%
40%
AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR
NATURE CROPS BOLLASÚPUR KÍNÓA & GRÆNM./KÍNÓA & KJÚKL. VERÐ ÁÐUR: 299 KR/PK KR/PK
COCOFINA GJAFAPAKKI VERÐ ÁÐUR: 3.998 KR/PK
40% | 2.399 KR/PK
gur á eatrvk.com
Texti: Tobba Mari
1. FL. LAMBALÆRISSNEIÐAR M/ARGENTINUMARENINGU VERÐ ÁÐUR: 3.098 KR/KG
-56 | 149
VERÐ ÁÐUR: 1.689 KR/KG
1.494 SUNNUDAG UR 24. JAN
20% | 878
1.585 KR/KG
ur og matgæðin nósdóttir rithöfund
KJÖTSEL FERSKT NAUTGRIPAHAKK VERÐ ÁÐUR: 1.450 KR/KG Mynd: Heiða Halls
FROSNAR DANSKAR KJÚKLINGABRINGUR - 900 G VERÐ ÁÐUR: 1.761 KR/KG
VIT HIT LEAN&GREAN EPLI OG YLLIBLÓM - 500ML VERÐ ÁÐUR: 270 KR/STK
-56 KR
EARTH FRIENDLY ÞVOTTAEFNI - 50 ÞVOTTA VERÐ ÁÐUR: 1.579 KR/PK KR/PK
40% | 179
15
40% | 947
DANPO KJÚKLINGALUNDIR, FROSNAR - 700 G
200 MÍLNA LAX Í SÆLKERAMARINERINGU, FAGFISK SNYRT LAXAFLÖK, FROSIN VERÐ ÁÐUR: 1.689 KR/PK VERÐ ÁÐUR: 2.698 KR/KG MIÐVIKUD AGUR 27. JAN FIMMTUDA 1.949 KR/KG VERÐ ÁÐUR: GUR JAN FÖSTUDAG UR 29. JAN 30% | 1.182 2.293 28. Tilboð dagsins Tilboð FERSKUR
1.754 KR/KG
-500
KR/KG
KR/PK
dagsins
Tilboð dagsins
KR
32%
AFSLÁTTUR
14
-500 KR | 999 KR/PK
HOLLUSTA
80 BLS.
NOW D3 2000 IU - 120 HYLKI VERÐ ÁÐUR: 1.499 KR/PK
HUMAR ASKJA - 2 KG VERÐ ÁÐUR: 9.998 KR/PK
4.749 KR/KG
SKELFLETTUR HUMAR - 1 KG VERÐ ÁÐUR: 4.998 KR/KG
20% | 3.998 KR/KG
VIP HUMAR ASKJA - 800 G VERÐ ÁÐUR: 6.989 KR/PK
6.570
KR/PK
46
AF FRÁBÆRUM TILBOÐUM, HUGMYNDUM, GREINUM OG UPPSKRIFTUM.
AFSLÁTTUR
50% AFSLÁTTUR
50% | 95
LAUGARDAGUR 30. JAN SUNNUDAGUR 31. JAN Tilboð dagsins ÍSFUGL FERSK KALKÚNABRINGA
Tilboð dagsins
NETTÓ KJÚKLINGABRINGUR VERÐ ÁÐUR: 2.098 KR/KG
HIMNESK HOLLUSTA MAÍSKÖKUR - 120 G VERÐ ÁÐUR: 219 KR/PK
FOOD DOCTOR NÆRINGARSTYKKI VERÐ ÁÐUR: 189 KR/STK KR/STK
32% | 149 KR/PK
MÁNUDAG UR 1. FEB IR NETTÓ KJÚKLINGALEGG
VERÐ ÁÐUR:3.629 KR/KG
21% | 2.867 KR/KG
1.888 35%
Tilboð VERÐ ÁÐUR: 869 KR/KG
782 KR/KG
45%
KR/KG
AFSLÁTTUR
40%
AFSLÁTTUR
HIMNESK HOLLUSTA KÓKOSHNETUOLÍA - 500ML VERÐ ÁÐUR: 1.369 KR/PK KR/PK
35% | 890
ÄNGLAMARK KÓKOSMJÓLK - 400 ML VERÐ ÁÐUR: 399 KR/PK KR/PK
45% | 219
dagsins
AFSLÁTTUR
47
WHOLESOME LÍFRÆNT BLUE AGAVE SÝRÓP - 1L VERÐ ÁÐUR: 999 KR/PK KR/PK
Tilboðin gilda 21. jan - 01. feb 2016
40% | 599
Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana. | Mjódd · Salavegur · Búðakór· Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |
www.netto.is | Tilboðin gilda 21. jan – 01. feb 2016 Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
markhönnun ehf
R ALVÖRU MATU SÉRFÆÐI KRÍLIN
FS
LÍFRÆNT
25%
A
A
A
LÍFRÆNT
%TUR 2F5SLÁT
%TUR 2F5SLÁT
Kókoshne tuolía ALLT AÐ
Ásdís fræðir gesti um heilsusamlegt mataræði, bragðgóðar uppskriftir og margt fleira.
4
VÍKURFRÉTTIR
Frá nýju sýningunni í Duus.
Íslensk náttúra á nýrri sýningu í Duus ●●Landslagsverk úr safneign Sýningin Íslensk náttúra, landslagsverk úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar hefur verið opnuð í Bíósal Duus Safnahúsa. Verkin sýna öll íslenska náttúru og eru eftir 16 listamenn frá ýmsum tímum og eru unnin í margvísleg efni s.s. olíu, leir og textíl. Elsta verkið er eftir Þórarin B. Þorláksson frá árinu 1906 og það yngsta eftir Sigtrygg Bjarna Baldvinsson frá árinu 2008. Aðrir listamenn sem eiga verk
á sýningunni eru Arngunnur Ýr, Ása Ólafsdóttir, Ásgrímur Jónsson, Eggert Guðmundsson, Eiríkur Smith, Guðmundur Karl Ásbjörnsson, Húbert Nói, Jóhannes Geir, Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson, Ólafur Túbals, Sigmar V. Vilhelmsson og Steinunn Marteinsdóttir. Sýningin stendur út apríl. Duus Safnahús eru opin alla daga frá kl. 12.00-17.00.
Auglýsing - Fyrirhuguð
deiliskipulagsvinna á Keflavíkurflugvelli Skipulagslýsing
Vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsvinnu hefur Isavia ohf. unnið skipulagslýsingu fyrir tvö aðskilin svæði á Keflavíkurflugvelli. Annars vegar Vestursvæði – Flugstöðvarsvæði um 190ha að stærð og hins vegar Austursvæði – Háaleitishlað um 90ha að stærð. Í samræmi við 1. mgr.40.gr.skipulagslaga eru skipulagslýsingarnar til kynningar á heimasíðu Keflavíkurflugvallar: www.kefairport.is/skipulagsmal. Hagsmunaaðilum er gefinn kostur á því að leggja fram sjónarmið og ábendingar við skipulagslýsingarnar og skal þeim skilað skriflega til Skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 235 Keflavíkurflugvelli eða á netpóstfangið sveinn.valdimarsson@isavia.is fyrir 2. febrúar 2016.
fimmtudagur 21. janúar 2016
Níu flugfélög fljúga allt árið um Keflavíkurflugvöll ●●Flýta þarf framkvæmdum
Gríðarleg fjölgun ferðamanna til Íslands og þar af leiðandi fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll hefur vart farið fram hjá neinum. Áætlunum sem Isavia gerði fyrir árin 2016 og 2017 þarf að flýta vegna fjölgunar farþega um Keflavíkurflugvöll. „Á örfáum mánuðum hefur farþegaspáin breyst mikið og færst fram um tvö ár,“ sagði Sveinbjörn Indriðason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Isavia, á fundi í Reykjanesbæ á þriðjudag. Fundurinn var haldinn í tilefni af Skattadegi Deloitte. Sá fjöldi ferðamanna sem áætlað var að færi um Keflavíkurflugvöll árið 2018 mun að öllum líkindum fara um völlinn nú á þessu ári eða um 6,2 milljónir farþega. Sveinbjörn sagði fjárfestingaráætlanir hafa verið byggðar á eldri spám og var áætlað að framkvæmt yrði fyrir 11 milljarða en nú er sú tala orðin ívið hærri. „Viðfangsefnið okkar árið 2016 verður því að komast yfir allt sem við höfðum áætlað að framkvæma á tveimur árum, 2016 og 2017,“ sagði hann. Nú í sumar munu 25 flugfélög fljúga reglulega um Keflavíkurflugvöll. Í máli Sveinbjörns á fundinum í dag kom fram að þann árangur mætti meðal annars rekja til þess að Isavia hafi frá upphafi skilgreint sig sem fyrirtæki í ferðaþjónustu. „Við höfum farið á ráðstefnur erlendis og kynnt Ísland sem áfangastað og Keflavíkurflugvöll sem flugvöll sem hagkvæmt er að fljúga til. Það hefur gengið vel og skilað okkur þessari umferð.“
Fjölmenni var á fundi Deloitte í tilefni af Skattadeginum. Hann var haldinn á Park Inn by Radisson Keflavik.
Níu flugfélög flugu til Íslands allt árið í fyrra. Til samanburðar voru þau tvö árið 2005, Icelandair og Iceland Express. Árið 2010 bættist svo SAS í hópinn. Að sögn Sveinbjörns er eitt að fá flugfélög til að taka rjómann yfir sumarið og annað að reyna að fá félög til að fljúga til landsins allt árið. „Þetta er gríðarlega mikilvægt og tengist því hvernig við skilgreindum okkur í upphafi. Við höfum lagt mikla áherslu á að fá erlend flugfélög til að fljúga til okkar yfir veturinn.“ Í máli Sveinbjörns kom fram að með meiri dreifingu væri hægt að taka við um 10 milljón farþegum árlega á Keflavíkurflugvelli. „Hjá okkur eru tveir til þrír álagspunktar, á morgnana, seinni partinn og svo um miðnætti. Það eru tækifæri til að beina nýjum flugfélögum inn á þann tíma sem rólegt er og þannig bæta nýtingu flugvallarins verulega.“
Sveinbjörn Indriðason, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs Isavia.
Keilir vill taka við af Lögregluskólanum ●●Kemur í ljós fyrir mánaðamót hvaða skóli kennir lögreglunemum „Þetta myndi styrkja svæðið mjög svo við vonum það besta,“ segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, um þann möguleika að skólinn taki við kennslu lögreglumanna af Lögregluskólanum. Keilir er einn fjögurra háskóla hér á landi sem hafa lýst yfir vilja á að taka að sér að kenna lögreglunám á háskólastigi. Hinir háskólarnir eru Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Bifröst og Háskólinn á Akureyri.
Fyrirhugað er að gera breytingar á lögreglunámi og myndi einhver háskólanna þá taka við af Lögregluskólanum næsta haust. Keilir sækir um að kenna lögreglunemum í samstarfi við Háskóla Íslands þar sem skólinn hefur ekki rekstrarleyfi sem háskóli. Háskóli Íslands er stærsti eigandi Keilis. Að sögn Hjálmars er málið í farvegi og mun
það skýrast fyrir næstu mánaðamót hvaða skóli tekur við lögreglunáminu. „Málið er nú í höndum innanríkisráðherra og við bíðum eftir ákvörðun. Ef Keilir fær verkefnið hefjast viðræður um útfærslu í framhaldinu.“ Hjálmar segir aðstöðu til kennslu í lögreglunámi mjög góða á Ásbrú og að svæðið sé nú þegar mikið notað af lögreglunni og henti sérstaklega vel til verklegrar kennslu.
PÁSKA OG SUMARÚTHLUTUN Starfsmannafélag Suðurnesja auglýsir orlofshús félagsins laus til umsóknar. Umsóknarfrestur vegna Páska er til 18. febrúar 2016. Umsóknarfrestur vegna Sumars er til 30. mars 2016. Úthlutað 5. apríl 2016.
Kæru Suðurnesjamenn.
Um er að ræða eftirtalin orlofshús: Munaðarnes 3 hús með heitum potti Verð: 19.000,-
Reykjaskógur 1 hús með heitum potti Verð: 30.000,-
Akureyri 2 íbúðir Verð: 25.000,-
Verðum á heilsugæslunni í Keflavík föstudaginn 29. janúar. Tímapantanir í síma 534 9600. Nánari upplýsingar www.heyrn.is
Páskaúthlutun er frá 23. mars til 30. mars 2016. Sumarúthlutun er frá 27. maí til 2. september (vikuleiga) Ath. Það er eitt laust tímabil eftir í húsi félagsins á Spáni í sumar Hægt er að sækja um orlofshús á vef félagsins www.stfs.is Eða vera í sambandi við starfsfólk á skrifstofu félagsins að Krossmóa 4, 260 Reykjanesbæ. Sími 421 2390.
Ellisif Katrín Björnsdóttir Heyrnarfræðingur veitir faglega ráðgjöf
Orlofsnefnd STFS
HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Auglýsingin er einnig á vefsíðu okkar www.stfs.is
Heyrn // Hlíðasmára 11 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is // www.facebook.com/heyrnehf
HVAÐA OPEL ERT ÞÚ?
Sumir bílar henta þínum lífsstíl betur en aðrir. Bílabúð Benna heilsar nýju ári með Opel-sýningu í Reykjavík og í Reykjanesbæ. Komdu og mátaðu Opel gæðin við þig og þína fjölskyldu. Opel-sýningin í Reykjanesbæ er hjá Bílabúð Benna, Njarðarbraut 9, laugardaginn 23. janúar og stendur frá kl.12:00 til 16:00. Kaffi og léttar veitingar á boðstólum. Kynntu þér Opel úrvalið á opel.is eða á benni.is. Verið velkomin í reynsluakstur. Reykjavík Reykjanesbær Opið virka daga frá 9 til 18 Tangarhöfða 8 Njarðarbraut 9 Laugardaga frá 12 til 16 590 2000 420 3330
Bílabúð Benna áskilur sér rétt til breytinga á verði og búnaði án fyrirvara.
OPEL SÝNING Á LAUGARDAG!
6
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 21. janúar 2016
RITSTJÓRNARPISTILL Páll Ketilsson
TÍU ÁR FRÁ RISAÁKVÖRÐUN Það eru tímamót í sögu Keflavíkurflugvallar eða gamla varnarsvæðisins. Í mars næstkomandi eru tíu ár frá því Bandaríkjamenn tilkynntu brotthvarf Varnarliðsins. Nokkur þúsund Kanar fóru hálfu ári síðar frá Íslandi. Herinn fór með manni og mús. Tilkynningin var mikið áfall fyrir Suðurnesin og þó svo hún hafi legið í loftinu í all nokkurn tíma vildi fólk einhvern veginn ekki trúa því. Ráðamenn þjóðarinnar höfðu gert ýmislegt til að koma í veg fyrir algeran brottflutning. En svo fór Kaninn á haustdögum 2006 en hann hafði verið á Keflavíkurflugvelli í sextíu ár. Það var mögnuð tilfinning að keyra um Völlinn og virða fyrir sér tómar byggingar og íbúðir í þúsunda vís. Hvað skyldum við nú gera? Í stuttu máli gerðist það að stofnað var Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco. Ungur maður úr Keflavík, Kjartan Eiríksson, var fenginn til að stýra því inn í nýja framtíð sem var umvafin mikilli óvissu. Um það bil eitt þúsund starfsmenn, langflestir Suðurnesjamenn, misstu störf sín við brotthvarf hersins. Góðærið sem þá var að ná hámarki takmarkaði skaðann sem þó var eins og allir vita núna, bara tímabundið. Skaðinn kom síðar með fullum þunga. Suðurnesjamennirnir sem fengu vinnu hjá fjölmörgum fyrirtækjum í vaðandi góðæris-sveiflu voru síðan fyrstir að fjúka þegar þurfti að draga saman seglin, eða hætta rekstri. Þetta er ein stærsta ástæðan fyrir því að atvinnuleysi hér varð hæst á Íslandi eftir bankahrun, nærri því 15%. Einhvern tímann hefðu stjórnvöld þurft að koma til hjálpar þegar svona margir missa vinnuna eins og gerðist þegar herinn fór en þau sluppu einhvern veginn því góðærið reddaði málum. Stjórnvöld voru síðan lömuð og gátu ekkert gert þegar hrunið varð því þá voru Suðurnesjamenn ekki einir í vandræðum þó þau væru mest hér. Þetta var stutt upprifjun á vandræðum vegna Varnarliðs og bankahruns. Í viðtali við Kjartan Eiríksson í blaði dagsins og sjónvarpsþætti vikunnar fer hann yfir málin og segir frá því hvernig uppbygging nýrrar byggðar, Ásbrúar, hefur gengið, nú þegar tíunda árið gengur í garð. Niðurstaðan er sú að uppbyggingin hefur gengið mjög vel og nú eru þúsundir manna sem ýmist starfa á Ásbrú eða í tengslum við svæðið. „Ásbrú er einstakt verkefni á Íslandi. Með því að umbreyta gamla Vellinum í svæði frumkvöðla, fræða og atvinnulífs aukum við virði þess og sköpum nýtingargrundvöll fyrir eignir,“ segir Kjartan. Þróunarfélagið sjálft hefur notað sjö milljarða króna í margs konar uppbyggingu, viðhald og framkvæmdir og þá hafa fyrirtæki sem hafa komið með starfsemi inn á svæðið einnig fjárfest fyrir tugi milljarða. Þar eru gagnaver til dæmis mjög stór. Verne gagnaverið var t.d. með næst stærstu nýsköpunarfjárfestinguna á öllum Norðurlöndum á síðasta ári. Þá hefur að lang flestra mati tekist vel til með það verkefni að koma íbúðarhúsnæði í notkun, án þess að það hefði mikil áhrif á fasteignamarkaðinn á Suðurnesjum. Stór hluti atvinnuhúsnæðis á Ásbrú er kominn í notkun en Bandaríkjamenn skildu eftir þúsundir fermetra í margs kyns húsnæði sem nú hefur verið nýtt til nýrra hluta. Frumkvöðlastarfsemi hefur gengið vel en líklega er á engan hallað þó svo háskólasamfélagið í Keili sé nefnt sem eitt best heppnaða verkefnið. Það hefur vaxið og dafnað og hefur haft og mun hafa mikil áhrif á samfélagið á Suðurnesjum um ókomna tíð. Sem sagt: Vel gert allir sem komu að því að endurreisa gamlan hervöll. Til hamingju!
Opel sýning á laugardag Bílabúð Benna heilsar nýju ári með Opel-sýningu í Reykjanesbæ, nk. laugardag. Opel átti frábæru gengi að fagna á síðasta ári, fyrsta heila árinu eftir að Bílabúð Benna tók við Opel umboðinu. Til sýnis á laugardaginn verður rjóminn úr glæsilegri vörulínu Opel; bílar sem gagnrýnendur hafa hlaðið lofi og viðurkenningum fyrir gæði og glæsileika. Í fréttatilkynningu frá Bíla-
búð Benna kemur fram að allir geti Hinn margverðlaunaði Opel Mokka verður m.a. á sýningunni hjá Bílabúð Benna.
fundið Opel fyrir sinn lífstíl og er fólk hvatt til að koma og máta Opel gæðin. Opel sýningin í Reykjanesbæ, fer fram hjá Bílabúð Benna, Njarðarbraut 9 og stendur frá kl. 12:00 til 16:00. Léttar veitingar verða í boði.
NÝTT MENNINGARKORT Í REYKJANESBÆ Menningarkort var kynnt á síðasta fundi menningarráðs Reykjanesbæjar en þau munu gilda inn í Duus-safnahús og í Rokksafn Íslands, Hljómahöll. Þau munu einnig veita afslátt í safnbúðum og á ýmsum menningartengdum viðburðum sem síðar verða kynntir.
Nýja kortið mun kosta 3.500 kr. og mun gilda í eitt ár. Aðgangseyrir inn í söfnin í dag er kr. 1500. Eins og við greindum frá nýlega hefur aðsókn aukist í söfnin, sérstaklega frá ferðamönnum. Þeir voru ánægðir með söfnin í bænum en bentu á í könnun að bæta mætti úrvalið söluvarningi, minjagripum.
Peysan Kristín heitir eftir langömmu Margrétar sem var bóndi í Móakoti. Tvíhneppti jakkinn Móri heitir eftir draugi sem ábúendur Móakots urðu varir við.
Klæðir fólkið sitt á Vatnsleysuströnd ●●Uppskriftir undir merkinu Móakot hafa notið mikilla vinsælda. Móakot er lítið býli á Vatnsleysuströnd sem nú er komið í eyði og á hönnuður uppskriftanna ættir sínar að rekja þangað. Margrét Halldórsdóttir er prjónakonan á bak við Móakots peysu uppskriftirnar sem notið hafa mikilla vinsælda. Margrét á ættir sínar að rekja til býlisins Móakots á Vatnsleysuströnd og er hönnun peysanna óður til formæðra og -feðra sem þar bjuggu. „Það má eiginlega segja að Móakot sé áhugamál sem fór úr böndunum,“ segir Margrét. Hún er sálfræðingur og starfar sjálfstætt á stofu og sinnir prjónaskapnum og hönnun fyrir Móakot í frístundum. Langamma Margrétar, Kristín Jónsdóttir, eignaðist Móakot árið 1879, þá aðeins tvítug að aldri. Margrét telur visst að langamma hennar Kristín hafi verið sjálfstæð og sterk kona, þar sem hún var einhleypur bóndi í Móakoti þar til hún varð 32 ára er hún giftist sveitunga sínum og langafa Margrétar, Bjarna Sigurðssyni. Þau ráku búskap saman í Móakoti til ársins 1923. Margrét er þegar búin að setja á markað peysu sem heitir Kristín í höfuðið á langömmu sinni og peysuna Bjarna í höfuðið á langafa sínum. „Það má eiginlega segja að ég sé að klæða fólkið mitt í,“ segir hún. „Ég sá mynd af langömmu og hún var afskaplega myndarleg kona og hann Bjarni langafi minn ekki síður. Ég ákvað að hanna kvenlega peysu með hreinum línum fyrir hana. Bjarni er svo einbandspeysa með Alpaca þræði.“
Móri draugur fær jakka
Eftir að peysu uppskriftirnar komu á markað hefur margt fólk sem áður bjó í Móakoti sett sig í samband við Margréti. Ein þeirra benti Margréti á að draugurinn Móri hefði verið þekktur ábúendum í Móakoti. Sú hét á Margréti að hanna peysu og nefna
heitir Móbjörg sem passar fallega inn í náttúruna í kringum Móakot.“
Gömul bréf veittu innblástur
Móakot á Vatnsleysuströnd er nú komið í eyði.
hana eftir drauginum. Margrét er búin að hanna tvíhnepptan herrajakka sem mun heita Móri og er væntanlegur á markað. Uppskriftirnar eru víða seldar, meðal annars hjá Gallerý Spuna í Grindavík, Fjarðarkaupum, hjá Ömmu Mús og Handprjónasambandi Íslands. Margrét hefur nær alla tíð prjónað í frístundum. Hún stundaði framhaldsnám í sálfræði í Noregi á 9. áratugnum og var þá mikið prjónaæði þar og prjónaði Margrét daglega. Svo prjónaði hún með hléum næstu árin. Stuttu eftir hrun hélt Ístex keppni og sendi Margrét þá inn peysuna Þjóðbjörgu og vann keppnina. Stuttu síðar hélt móðurfjölskylda Margrétar ættarmót við Móakot og eftir það ákvað hún að setja uppskriftir undir merki Móakots á markað. „Á ættarmótinu fékk ég ýmsar upplýsingar um fólkið mitt og nefni peysurnar allar eftir þeim en líka eftir náttúrunni á Vatnsleysuströnd. Til dæmis er ein brún sem
Amma Margrétar og nafna flutti frá Móakoti til Hafnarfjarðar og skrifaðist lengi á við Kristínu móður sína sem enn bjó þar. Margrét fékk síðar sum bréfanna og hafa þau veitt henni innblástur við hönnunina. „Póstmaðurinn fór með bréfin á milli Vatnsleysustrandar og Hafnarfjarðar á hesti. Ég er heilluð af lífi fólks um þar síðustu aldarmót. Það var svo harðbýlt og fólk gekk jafnvel ekki í ullarfötum. Ég hugsa að þetta hafi verið mikil vosbúð.“ Margrét lét gera nákvæma eftirlíkingu af broti bréfanna og uppskriftirnar að Móbjörgu og Þorbjörgu eru prentaðar á þau. Uppskriftir Margrétar eru seldar ein og ein sér en eru ekki í prjónablöðum eins og sennilega flestar uppskriftir sem gefnar eru út hér á landi. Margrét segir hugarfar Íslendinga gagnvart höfundarrétti hafa breyst mikið á undanförnum árum og því minna um að fólk ljósriti uppskriftir og dreifi meðal vina og kunningja. „Sá skilningur er að aukast að því fleiri sem festa kaup á hönnunarvöru, því meiri líkur eru á að verðið lækki.“ Peysurnar eru allar úr einbandi og segir Margrét það mjög gott í peysur til að klæðast inni, tvöfaldur lopi sé of hlýr fyrir marga til að vera í innandyra. Prjónafólk hér á landi og víða um heim hefur tekið vel á móti Móakots peysunum og hafa uppskriftirnar verið þýddar á dönsku og ensku og eru seldar í ýmsum erlendum vefverslunum. Sjálf hefur Margrét fengið pöntun frá Ástralíu. Það má því segja að litla Móakot á Vatnsleysuströnd sé farið í útrás.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Janúar
gleði föstudagur
sunnudagur
2 9 28 30 31 Laugard
agur
fimmtudagur
janúar
janúar
janúar
janúar
DAGLEG OFURTILBOÐ ÚT JANÚAR! Matar og kaffistell 20 stk.
bóndadagurinn
4.195
kr.
41100109 Almennt verð: 6.995 kr.
Þilofn olíufylltur 600W - 1150x70x300mm
5.497
kr.
50%
afsláttur
65105828 Almennt verð: 10.995 kr.
TORIN hjólatjakkur, búkki og stoppari
5.995
kr.
40%
40%
afsláttur
afsláttur
67079062 Almennt verð: 9.995 kr.
VANTAR GJÖF FYRIR BÓNDANN? 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM RAFMAGNSVERKFÆRUM HELGINA 22.-24. JANÚAR
GJÖCO Proff Loftmálning 9l.
4.995
kr.
80602809 Almennt verð: 7.295 kr.
32%
afsláttur
Járnhillur, 150kg burðarþol 180x100x30mm,
3.997
kr.
38910093 Almennt verð: 7.995 kr.
50%
afsláttur
EINHELL multisög
8.935
kr.
40% afsláttur
74801055 Almennt verð: 14.895 kr.
AuðvelT að versla á byko.is sendum út um allt land
E-STONE Ultra white 60x60cm gólf- og veggflís
2.995
kr./m2
17800100 Almennt verð: 5.995 kr.
50%
afsláttur
20%
afsláttur af öllum Sonax vörum 21.-31. janúar
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/ eða myndabrengl. Hvert tilboð gildir í einn dag meðan birgðir endast.
8
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 21. janúar 2016
Tugmilljarða fjárfestingar á Ásbrú ●●Fjölmargir hafa haft sitt lífsviðurværi af verkefninu ●●Leggja áherslu á að byggja upp góða samfélagsblöndu ●●Tækifæri til að auka menntunarstig og tækifæri fyrir menntað fólk
Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, leiðir nú félagið inn í tíunda starfsárið. Það var stofnað 24 dögum eftir brotthvarf Varnarliðsins haustið 2006 með það fyrir augum að umbreyta herstöð til borgaralegra nota. „Ásbrú er einstakt verkefni á Íslandi. Með því að umbreyta svæðinu í svæði frumkvöðla, fræða og atvinnulífs aukum við virði þess, ekki bara fyrir Suðurnesjamenn heldur landsmenn alla. Þar með skapast líka nýr nýtingargrundvöllur fyrir eignir sem ekki var til staðar áður,“ segir Kjartan. Hann segir í viðtali við Víkurfréttir að uppbygging á Ásbrú hafi í heildina gengið eftir þeim plönum sem lagt var upp með í byrjun. Suðurnesin væru ekki á sama stað efnahagslega ef til þessa verkefnis og þeirrar vinnu sem þar hefur verið unnin hefði ekki komið. „Okkur var það ljóst að í byrjun var verkefnið nokkuð óljóst. Við þurftum að setja mikla vinnu í gang við að greina þau tækifæri sem voru til staðar og móta ákveðinn ramma um stefnuna okkar. Ég vil segja að í meginatriðum hafi það allt gengið eftir,“ segir Kjartan. Hann segir einnig að Ásbrú sé mikilvæg nú þegar mikil aukning er í ferðaþjónustu á svæðinu: „Ég held, ef við horfum til flugvallarins og mikillar aukningar í ferðaþjónustu, að við verðum að horfa til þess að samfélagið verði ekki einsleitt og hvaða aðra þætti við þurfum líka að leggja áherslu á til að byggja upp góða samfélagsblöndu og sterkt og gott samfélag til langs tíma litið. Ég held klárlega að þetta verkefni sem hér er og sú vinna sem er búin að vera hér á Ásbrú á undanförnum árum að hún eigi eftir að eiga stóran þátt í því að samfélagsblöndun á svæðinu verði með jákvæðum hætti.“
Tvær stórar krísur á Suðurnesjum
Kjartan segir þau næstum 10 ár sem liðin eru frá því Varnarliðið tilkynnti um fyrirhugað brotthvarf frá Keflavíkurflugvelli bæði langan og stuttan tíma. „Það hefur fjölmargt gerst og bæði mörg fyrirtæki og margir einstaklingar flutt inn á svæðið á þessum tíma. Það má heldur ekki gleyma því að á þessum tíma er svæðið að fara í gegnum tvær mjög stórar krísur. Annars vegar eina af stærstu efnahagskrísum svæðisins þegar Varnarliðið fer og hins vegar fjármálahrunið sem fylgdi í kjölfarið. Það hafa því aðeins verið nokkur ár þar sem uppbyggingin hefur verið með eðlilegum hætti í eðlilegu umhverfi. Það breytir því ekki að við höfum notað tímann vel, dregið fjölmörg fyrirtæki inn á svæðið og haldið með markvissum hætti í þá
endilega að vera flutningaháð en vilja vera við flugvöllinn því það skapar virði í þeirra rekstri.
Fimm af sex gagnaverum landsins á Ásbrú
stefnu sem við sköpuðum í byrjun. Það hefur leitt til þess að nú þegar betur árar höfum við höfum náð að grípa boltann á lofti þar sem hann var þegar fjármálahrunið dettur yfir okkur“. Ef við horfum yfir þessi 10 ár. Hvað hefur helst gerst á þeim tíma? „Til að byrja með hófst vinna við stefnu fyrir svæðið. Út frá þeirri stefnu hefur svo verið unnið. Það er alveg ljóst að það magn af eignum sem hér er hefði getað haft áhrif á annað sem er að gerast á svæðinu. Okkar markmið var að lágmarka neikvæð áhrif og hámarka þau jákvæðu. Þar með höfum við skilgreint ákveðnar greinar sem við höfum sótt markvisst á. Samgöngur, heilsu og tækni. Fyrsta verkefnið var stofnun Keilis sem hefur haft mikil áhrif, ekki bara á Ásbrú, heldur öll Suðurnes og landið í heild. Keilir var stofnaður með það í huga að hann þjónaði sömu sviðum og Kadeco myndi sækja á. Þannig rekur Keilir flugskóla, heilsuskóla og í samstarfi Háskóla Íslands útskrifar hann Tæknifræðinga með Bs. gáðu. Við horfum á að þar eru 2500 manns sem hafa útskrifast síðan Keilir byrjaði. Þar af eru um 1300 manns í Háskólabrú einni og langstærstur hluti þeirra heldur áfram í háskólanám. Við getum alveg farið í vangaveltur um það hvaða áhrif þetta muni hafa á samfélagið okkar hér á Suðurnesjum á næstu árum. Öll þekking er af hinu góða og fólk með meiri þekkingu ferðast áfram í lífinu og mun setja mark sitt á svæðið á næstu árum. Þetta er eitt. Síðan þau fyrirtæki sem við höfum markvisst verið að sækja á. Við höfum náð góðum árangri þar. Við erum að horfa á tækifæri í tengslum við fyrirtæki sem á einhvern hátt eru að horfa til flugvallarins með sína uppbyggingu. Þau þurfa ekki
Eitt af þessu eru gagnaverin. Við erum með fimm af þeim sex gagnaverum sem staðsett eru hér á landi. Það er alveg ljóst að það verkefni datt ekki af himnum ofan. Það er markviss stefna og viðræður við þessa aðila sem hafa leitt til þess að þau eru hér og sjá virði í því að vera hér. Ef við horfum á íbúafjöldann þá eru hérna 2000 manns sem búa hér á svæðinu, fólk sem á klárlega eftir að leggja til samfélagsins á næstu árum. Auðvitað er gegnumstreymi og stór hluti af því fólki sem hér býr eru nemendur sem eru í námi hjá Keili eða öðrum háskólastofnunum. Eða fólk sem er tímabundið að vinna hjá þeim fyrirtækjum sem hér eru. Það er líka fólk hérna sem mun festa hér rætur til langs tíma litið. Síðan erum við með aðrar greinar eins og líftækniiðnaðinn. Við erum með flott líftæknifyrirtæki sem er í örum vexti hér á svæðinu og svona mætti lengi telja.“
Okkar verkefni að búa til nýja eftirspurn Eitt af stóru áhyggjuefnunum á Suðurnesjum var hvernig þessi mikli fjöldi auðra íbúða myndi hafa áhrif á fasteignamarkaðinn þegar þær yrðu teknar í gagnið. Kjartan segir að þær áhyggjur hafi verið mjög skiljanlegar. „Ég myndi segja að það hafi gengið ótrúlega vel. Ástandið á fasteignamarkaði á Suðurnesjum hafði verið verra en á mörgum öðrum svæðum á landinu í töluvert lengri tíma. Þess vegna litum við svo á að það væri okkar verkefni að búa til nýja eftirspurn eftir þessum eignum. Við gætum hverrgi getað farið í gengum það verkefni að svona stórt hlutfall af nýju húsnæði væri að koma inn á svæðið án þess að það hefði einhver áhrif á svæðið. Okkar verkefni var að lágmarka þau áhrif og ég held að það hafi gengið ótrúlega vel. Í tengslum við Keili er mikið af nýju fólki flutt inn á svæðið sem hefði ekki verið hér annars. Sama má segja um þau fyrirtæki og störf sem hafa verið sköpuð hér á undanförnum árum. Fólk sem býr hér er að miklu leiti í tengslum við þá viðbót sem hefur orðið hér á svæðinu og í tengslum við þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað“. Á Ásbrú er tvennskonar íbúðarhúsnæði. Annars vegar fjölskylduhúsnæði og hins vegar einstaklingshúsnæði. Búið er í um 70% af því fjölskylduhúsnæði sem er til staðar, eða í um 700 íbúðaeiningum. Um 300 fjölskylduíbúðaeiningar eiga eftir að fara í nýtingu. Í einstaklingshúsnæðinu eru um 300 íbúðir nýttar en um 700 ónýttar. „Á næstu tveimur árum teljum við að nær allt fjöl-
skylduhúsnæðið komið í nýtingu og sama má segja með einstaklingshúsnæðið. Við sjáum nokkur ólík hlutverk fyrir það húsnæði. Eitthvað tengist uppbyggingu í ferðaþjónustu. Annað lítur að mönnun nýrra starfa við flugvöllinn. Þá sjáum við möguleika á að breyta hluta af einstaklingshúsnæðinu í skrifstofur, m.a. í tengslum við starfsemi á svæðinu og uppbyggingu flugvallarins.“
Nær allt iðnaðarhúsnæði í notkun
Kjartan segir að staðan á atvinnuhúsnæði sé þannig að nær allt iðnaðarhúsnæði á Ásbrú sé í nýtingu í dag og mikil eftirspurn hefur verið eftir því á undanförnum árum. Iðnaðarhúsnæði hefur m.a. verið nýtt fyrir sprotastarfsemi sem hafa verið að koma og allskyns ólíka starfsemi sem hefur komið inn á svæðið. „Svo eigum við eitthvað af þjónustuhúsnæði sem má nýta betur og á eftir að nýtast betur á næstu árum, meðal annars vegna nálægðar við Háaleitishlað. Með auknum umsvifum á svæðinu sjáum við nýtingu fyrir allt þetta húsnæði. Þetta mun fléttast saman við aukinn íbúafjölda og eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði.“ Ábatinn af sölu og leigu eigna hefur nær allur farið inn í hagkerfið hér á svæðinu. Kadeco eitt og sér hefur sett 7 milljarða króna í umbreytingu og viðhald á einum allra erfiðustu árum Suðurnesja í efnahagslegu tilliti. Sumir vildu í upphafi verkefnisins horfa til þess að rífa ætti eignirnar. Það er alveg ljóst að sú aðferðafræði sem varð ofan á hefur skilað margfalt meiri ábata til samfélagsins en ef sú leið hefði verið valin.
Þetta er rétt að byrja og margir eru rétt að átta sig á því sem raunverulega er að gerast og hverju sú mikla fjárfesting sem hér hefur átt sér stað er að skila Kjartan Þór Eiríksson,
fimmtudagur 21. janúar 2016
9
VÍKURFRÉTTIR
FRAMTÍÐARSTARF Bílasprautun Magga Jóns er að leita að bílamálara eða manni sem hefur þekkingu á bílamálun. Við erum að tala um framtíðarstarf fyrir þig með fagmönnum í bílamálun. Bílasprautun Magga Jóns er rótgróin bílasprautun og hefur verið starfrækt á Iðavöllum 11 í Keflavík síðan 2002. Gagnaver Verne á Ásbrú. Þar hefur verið fjárfest fyrir tugi milljarða og mikil uppbygging framundan. VF-mynd: Hilmar Bragi
Fjölmargir hafa lífsviðurværi af verkefninu Kjartan segir að alla tíð hafi verið góð tenging milli Þróunarfélagsins og sveitarfélaganna. Þróunin á Ásbrú hafi mikla þýðingu fyrir þau öll. „Sveitarfélögin hafa frá fyrstu tíð átt sinn fulltrúa í stjórn og þannig er það ennþá í dag. Sveitarfélögin tóku þátt í stefnumótun félagsins á sínum tíma og meðal annars er nafnið Ásbrú komið frá fyrrverandi bæjarstjóra Sveitarfélagsins Garðs. Við höfum alltaf reynt að tengja sveitarfélögin við okkur með sem bestum hætti og starfað með þeim að mörgum verkefnum. Auðvitað er það þó þannig að okkur er falið að gæta ákveðinna hagsmuna í verkefninu og þeir fara ekki endilega alltaf saman við hagsmuni einstakra sveitarfélaga. Ég held að það hafi þó gengið ótrúlega vel að leysa þann litla ágreining sem hefur komið upp. Ég er alveg sannfærður um að það virði sem hefur verið búið til hér fyrir svæðið með þessu verkefni og þeirri leið sem var farin á sínum tíma, að nýta þessar eignir til að byggja upp á svæðinu og horfa á tækifæri til að auka menntunarstig
og auka tækifæri fyrir menntað fólk til að starfa á svæðinu, á eftir að hafa áhrif á svæðinu sem fólk er ekki farið að sjá fyrir í dag. Þetta er rétt að byrja og margir eru rétt að átta sig á því sem raunverulega er að gerast og hverju sú mikla fjárfesting sem hér hefur átt sér stað er að skila. Það sér það í því að einhver sem það þekkir er að nema hjá Keili, er að starfa hjá einhverju af því fyrirtækjum sem eru hér í miklum fjárfestingum. Við erum að horfa á tugmilljarða fjárfestingar á undanförnum árum ef við tökum saman það sem við höfum eytt og þau fyrirtæki sem eru að byggja upp eins og Verne, Algalíf og fleiri. Verne gagnaverið hefur þegar og er að fjárfesta fyrir tugi milljarða. Það er önnur stærsta tæknifjárfesting á Norðurlöndunum, aðeins var fjárfest meira í Spotify. Fyrir utan aðrar fjárfestingar svo sem hjá Algalíf og öðrum fyrirtækjum sem skipta jafnframt milljörðum. Þetta eru beinar fjárfestingar. Þetta eru ekki allt peningar sem rúlla bara innan þessa svæðis, þetta eru peningar sem rúlla um öll Suðurnes og enda sem útsvar
og launagreiðslur í öðrum póstnúmerum en hér. Það eru fjölmargir sem hafa haft sitt lífsviðurværi af verkefninu á undanförnum árum fyrir utan þann grundvöll og þau framtíðartækifæri sem verkefnið er að skapa með Keili og þeim nýju fyrirtækjum sem eru að koma hérna inn.“
Góður grundvöllur fyrir áframhaldandi þróun
Þú sérð þessa þróun halda áfram? „Alveg klárlega. Ég held að það sé kominn góður grundvöllur fyrir áframhaldandi þróun. Ég held líka, ef við horfum til flugvallarins og mikillar aukningar í ferðaþjónustu, að við verðum að horfa til þess að samfélagið verði ekki einsleitt og hvaða aðra þætti við þurfum líka að leggja áherslu á til að byggja upp góða samfélagsblöndu og sterkt og gott samfélag til langs tíma litið. Ég held klárlega að þetta verkefni og sú vinna sem er búin að vera hér á undanförnum árum eigi eftir að eiga stóran þátt í því að samfélagsblöndun á svæðinu verði með jákvæðum hætti.
Áhugasamir endilega hafið samband við Magnús á netfangið bilasprautun@simnet.is og eða í síma 898-6909, allar umsóknir verða teknar til skoðunar.
BOCCIA ÆFINGAR Í GRINDAVÍK Boccia æfingar hefjast í dag fimmtudaginn 21. janúar kl. 18:00-19:30 í íþróttahúsinu í Grindavík.
Íþróttafélagið Nes
SÖLU- OG MARKAÐSFULLTRÚI LANGAR ÞIG AÐ VINNA Í BESTU FRÍHÖFN EVRÓPU?
Fríhöfnin óskar eftir að ráða sölu- og markaðsfulltrúa Fríhöfnin leitar að duglegum og jákvæðum starfsmanni sem hefur metnað og getu til að taka þátt í vaxandi starfsemi og stöðugt nýjum áskorunum. Um er að ræða 80% starf í sölu- og markaðsdeild fyrirtækisins. Unnin er dagvinna.
Helstu verkefni:
Hæfniskröfur:
• Vöruframstilling og merkingar
• Góð almenn menntun, háskólamenntun er kostur
• Auglýsinga- og kynningarmál
• Þekking og gott auga fyrir vöruframstillingum og flæði í verslun
• Innri og ytri markaðsmál
• Góð færni í Illustrator og Photoshop • Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í hópi • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknum skal skilað inn rafrænt á www.dutyfree.is/atvinna. Umsóknarfrestur er til og með 28. janúar. Fríhöfnin er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi og hefur hlotið fjölda viðurkenninga síðastliðin ár, m.a. í starfsmenntamálum, fyrir að vera besta fríhöfn í Evrópu og fjölskylduvænt fyrirtæki. Stærstu vöruflokkarnir í verslunum félagsins eru áfengi, tóbak, snyrtivörur og sælgæti. Fríhöfnin hefur sett sér það markmið að vera ávallt til fyrirmyndar í jafnréttismálum og leggur áherslu á góðan starfsanda.
www.dutyfree.is
10
VÍKURFRÉTTIR
LEIKSKÓLAKENNARI ÓSKAST Heilsuleikskólinn Heiðarsel óskar eftir leikskólakennara í 100% stöðu sem fyrst. Meðal helstu verkefna er uppeldi og menntun leikskólabarna skv. starfslýsingu leikskólakennara; taka þátt í uppeldis- og menntunarstarfi á deildinni, faglegu starfi leikskólans og vinna í nánu sambandi við foreldra. Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig er að finna upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur. Umsóknarfrestur er til 12. febrúar nk. Frekari upplýsingar veitir Ólöf Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 4203131/8917178 eða olof.gudmundsdottir@ heidarsel.is. Upplýsingar um leikskólann má finna á vefnum www.heidarsel.is.
ÍSLENSK NÁTTÚRA NÝ SÝNING Í BÍÓSAL DUUS SAFNAHÚSA
Listasafn Reykjanesbæjar sýnir landslagsverk úr safneigninni. Gömul og ný, olíuverk, vefnaður og leir.
HEIMSÓKN BÆJARSTJÓRA Bæjarstjóri Reykjanesbæjar mun heimsækja allar stofnanir og deildir Reykjanesbæjar í janúar og febrúar til að veita bæjarbúum upplýsingar. Þessar heimsóknir standa almennum vinnustöðum og hópum í Reykjanesbæ einnig til boða. Áhugasamir hafi samband við verkefnastjóra upplýsingar- og kynningarmála í netfangið svanhildur.eiriksdottir@reykjanesbaer.is eða síma 421-6700.
DEILISKIPULAGSTILLAGA Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með auglýst til kynningar eftirfarandi deiliskipulagstillaga Framnesvegi 11. Deiliskipulagssvæðið er um 0,7 ha milli Framnesvegar, Skólavegar og Ægisgötu (áður frystihúsið Jökull). Á svæðinu er eingöngu reiknað með íbúðum í 4 húsum 4 - 5 hæða. Tillaga ásamt fylgigögnum verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 21. janúar til 3. mars 2016. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. mars 2016. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ. Reykjanesbæ, 20. janúar 2016. Skipulagsfulltrúi
Stuð og stemmning á þorrablóti Keflavíkur
fimmtudagur 21. janúar 2016 Rúmlega sexhundruð Keflvíkingar mættu á árlegt þorrablót sem haldið var í Íþróttahúsi Keflavíkur. Stemmningin var gríðarlega góð og gestir í góðum fíling. Að venju var sýndur Keflvíkurannáll þar sem höfundar fara yfir atburði liðins árs í máli og myndum. Þar er meira um grín en alvöru en þó allt í bland. Fjölmiðlamennirnir Máni og Frosti mættu með léttleika til gesta og tónlistarmaðurinn Björn Jörundur tók nokkur lög. Ingó tók svo brekkusöng með gestum og náði vel til fjöldans sem tók vel undir. Það var svo hljómsveitin Á móti sól sem fékk fólk út á gólf og dansinn dunaði fram eftir nóttu. Hér eru nokkrar myndir frá stemmningunni sem Páll Orri og Páll Ket tóku.
15-2167 – HVÍTA HÚSIÐ/SÍA
Allt um peninga með Jóni Jónssyni Fræðslufundur með Jóni Jónssyni, tónlistarmanni og hagfræðingi, í Stapanum þriðjudaginn 26. janúar kl. 19.30. Á fundinum fræðir Jón unglinga á aldrinum 12–16 ára um peninga á skemmtilegan hátt. Allir velkomnir, skráning á arionbanki.is/vidburdir
12
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 21. janúar 2016
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma,
Erna Sigurðardóttir,
Reykjanesvegi 14, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofun Suðurnesja föstudaginn 15. janúar síðastliðinn. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, föstudaginn 22. janúar kl. 14:00. Sævar Sigurðsson, Sigríður Baldursdóttir, Líney Sjöfn Baldursdóttir, Sævar Baldursson, Díana Sjöfn Eiríksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Pípulagningamenn af Suðurnesjum og starfsmenn hjá HS Veitum á kynningu sem haldin var um verkefnið hjá HS Veitum á dögunum. VF-myndir: Hilmar Bragi
Kjartan Valdimarsson,
70% hafa náð að lækka orkukostnað
Margrét Arna Eggertsdóttir, Þorleifur Gestsson,
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
María Jónsdóttir,
frá Norðfirði, Vatnsnesvegi 29 Keflavík,
●●Nærri 6 þúsund hemlum skipt út fyrir mæla. ●●Tekur um tvö og hálft ár að skipta um á öllum Suðurnesjum
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 17. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 28. janúar kl. 13:00. Hannes Einarsson, Sigurlaug Einarsdóttir, Bjarni Ásgeirsson, Margrét Lilja Einarsdóttir, Jón Kristfinnsson, Jón Ben Einarsson, Gerður Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn
ATVINNA
Okkur hér á Ránni vantar tvær duglegar, glaðlegar og snyrtilegar stúlkur í þjónustustörf í sumar. Unnið er á vöktum.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband á rain@rain.is, með upplýsingum um aldur, fyrri störf og símanúmer
ÞORRABLÓT ELDRI BORGARA
Í MIÐHÚSUM FIMMTUDAGINN 4. FEBRÚAR Nú er komið að hinu árlega þorrablóti eldri borgara í Miðhúsum í Sandgerði. Borðhald hefst kl. 18:00. Verð kr. 5000,- á mann. Skráning og upplýsingar í síma 420 7540. Skráning fyrir 28. janúar.
„Þetta eru 5700 hemlar sem við ætlum að skipta út og nú um áramótin vorum við búin að skipta út rúmlega 1000 mælum. Við reiknum með að verkefnið taki tvö og hálft ár og kosti 350 milljónir króna þegar allt er komið,“ segir Júlíus Jónsson, forstjóri hjá HS Veitum í samtali við Víkurfréttir. Eins og við greindum frá í Sjónvarpi Víkurfrétta í síðustu viku eru HS Veitur byrjaðar að mælavæða heitavatnsnotkun heimila á Suðurnesjum. Júlíus Jónsson Byrjað var að mælaforstjóri hjá HS væða fyrirtæki og Veitum. stofnanir árið 2010 og er því verkefni lokið en um 1100 mælar voru þá settir upp. Reynslan af því verkefni er sú að 70% af þeim aðilum hafa náð að lækka orkukostnað vegna kaupa á heitu vatni. Í haust var svo byrjað að skipta út hemlum á hitaveituinntaki á heimilum. Byrjað var í Innri-Njarðvík og á Ásbrú. Þessar vikurnar eru píparar m.a. að störfum í Vogum og YtriNjarðvík en svo verður farið í Garð, Sandgerði, Grindavík og endað í Keflavík. Verkefnið er unnið af pípulagningamönnum HS Veita. Verkið er unnið þannig að þjónustuborðið hjá HS Veitum hringir í fólk og fær tíma hjá því. Svo mæta pípulagningamenn frá fyrirtækinu og fjarlægja hemil af hitaveituinntakinu og setja mæli í staðinn. Júlíus segir að eina sem fólk þurfi að gera sé að hleypa pípulagningamönnum inn og tryggja gott aðgengi að inntakinu. Það sé oft á bakvið kassa og dót í geymslum og bílskúrum. Júlíus segir að alveg eins og í fyrirtækjunum, þar sem 70% notenda hafa lækkað orkureikninginn við kaup á heitu vatni með mæli, þá eigi einstaklingar að geta það líka með því að huga að og stýra notkun sinni á heitu vatni. „Fólk hefur ekki verið að gera það í hemlakerfinu því það hefur ekki verið ástæða til þess. Nú verður ástæða og við væntum þess að fólk hugi að nýtingunni þannig að hún verði betri.“ Þið munið með þessu fyrirkomulagi geta fylgst mjög vel með notkuninni. Eru fjarálesnir mælar það sem koma skal? „Þeir eru það sem er að koma. Við setjum inn í okkar kerfi áætlun um
NES hefur það að markmiði að efla gott íþróttastarf fyrir fatlaða, gefa fötluðum tækifæri á að iðka íþróttir á jafnréttisgrundvelli, að mæta einstaklingum þar sem þeir eru og þeir fái að njóta sín.
Það eru margir með heita potta. Hver eru skilaboðin til þeirra? „Bara ekki halda þeim heitum alltaf eða stöðugt. Það er ekkert stórmál að fylla pottinn af heitu vatni og það kostar engin ósköp. Það tekur skemmri tíma með mæli en þegar hemillinn var. Menn geta tekið meira vatn á skemmri tíma. Ég hvet fólk til að vera ekki með sírennsli, klárlega ekki, því þá kemur reikningurinn til með að hækka verulega.“ Nú er fyrirtækið að hætta að senda uppskipta reikninga. Hvers vegna er það? „Það hefur verið tekin upp sú regla að fyrir hvert mælitæki sem við setjum upp verður bara einn reikningur. Við höfum verið eina fyrirtækið með uppskipta reikninga þar sem er eitt mælitæki en upp í 48 reikninga. Þetta er bæði kostnaðarsamt og vonlaust í innheimtu. Hvað eigum við að gera ef 20 af þessum 48 borga ekki? Eigum við að loka? Við segjum að fólk standi saman að innkaupunum. Það er þeirra ákvörðun, ekki okkar, að standa saman að einu mælitæki og innkaupunum og þ.a.l. standa þeir saman að innkaupunum. Þannig hefur þetta verið á Reykjavíkursvæðinu og hjá öðrum veitum og gengið ágætlega. Það er lagaskylda á Íslandi fyrir fjöleignarhús og alveg niður í tvíbýli að vera með húsfélög, þannig að þetta á að vera einfalt. Það var dálítill hvellur yfir þessu fyrst en það er full sanngirni í þessu. Ef menn standa saman að einhverju, þá bera þeir líka sameiginlega ábyrgð á því.“ Júlíus segir að verkefnið hafi gengið vel og mælarnir láta strax vita ef notk-
Nýi mælirinn sem settur verður upp á öllum heimilum á Suðurnesjum.
Hemli skipt út og mæli komið fyrir í staðinn á hitaveituinntaki.
unn er óeðlileg. Þannig hafi óeðlilega mikil vatnsnotkun verið vegna þess að snjóbræðslukerfi hafi notað ótæpilega af vatni. Fólk fái einnig að vita af óeðlilegum toppum þegar t.a.m. gleymist að skrúfa fyrir vatn í heita potta og þar sé komið sírennsli í langan tíma. HS Veitur hafa með bréfum til viðskiptavina beðið fólk um að fá pípulagningamenn til að yfirfara hjá sér kerfið í tengslum við mælauppsetninguna til að uppákomur eins og óeðlilegt sírennsli eigi sér stað. Í dag er fyrirkomulagið þannig að í allar nýframkvæmdir eru settir mælar en ekki hemlar að einnig ef hemlar bila á svæðum þar sem ekki er komið að mælaskiptum þá eru settir upp mælar. „Ef við komumst inn hjá fólki þá setjum við upp mæla,“ segir Júlíus. Hann segir einnig að fólk geti óskað eftir mæli þó svo ekki sé komið að þeirra sveitarfélagi eða hverfi. Fólk þurfi í raun ekki að segja annað en það sé kalt hjá því, þá sé hemli skipt út fyir mæli.
MENNINGARVIKA GRINDAVÍKUR HALDIN Í ÁTTUNDA SINN
Nes og Grindavíkurbær í samstarf Grindavíkurbær og Íþróttafélagið Nes hafa skrifað undir tveggja ára samstarfssamning. Í honum felst meðal annars að Grindavíkurbær leggur Nesi lið við félags- og íþróttastarf með framlagi og jafnframt skuldbindur Nes sig til að senda þjálfara til að stjórna bocciaæfingum í íþróttahúsinu í Grindavík, einu sinni í viku, 90 mínútur í senn. Æfingar hefjast í íþróttahúsinu í vikunni.
hvað fólk kemur til með að nota út frá því hvað það keypti áður samkvæmt mæli. Við fáum til okkar álestur daglega og ef við sjáum að notkun er að fara 30% fram yfir það sem getur talist eðlileg notkun sem við áætluðum, þá hringjum við í fólk og gerum því viðvart og látum vita að það sé eitthvað sem þarf að skoða eða ekki í lagi. Fjarálestur er klárlega það sem er að koma skal og stjórn fyrirtækisins hefur lagt fram áætlun um að allir mælar, hvort sem það verði fyrir vatn eða rafmagn, verði fjarálesnir. Þetta er mikið verkefni og tekur örugglega 5-6 ár en þetta eru um 40 þúsund mælar sem við erum með í vatni og rafmagni“.
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs skrifaði undir samninginn fyrir hönd Grindavíkurbæjar, í fjarveru bæjarstjóra, en Drífa Birgitta Önnudóttir fyrir hönd Íþróttafélagsins Nes.
Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkur hefur samþykkt að hin árlega Menningarvika verði að þessu sinni haldin 12. - 20. mars nk. Þetta verður í áttunda sinn sem Menningarvikan verður haldin og að þessu sinni verður lögð áhersla á handverk í sem víðasta skilningi þess orðs en auðvitað verður fjölbreytt dagskrá að vanda eins og tónleikar, ýmiskonar sýningar, viðburðir og margt
fleira. Undirbúningur er hafinn af fullum krafti. Grindvíkingar, fyrirtæki, stofnanir, þjónustuaðilar og allir þeir sem hafa áhuga á menningu eru hvattir til þess að skipuleggja menningarviðburði í þessari skemmtilegu viku. Upplýsingar um viðburðinn á að senda á Þorstein Gunnarsson sviðsstjóra frístundaog menningarsviðs á netfangið thorsteinng@ grindavik.is í síðasta lagi 20. febrúar nk.
1000g
1.298 kr. stk.
1.398 kr. 10 stk.
Bónus Súkkulaðikaka, 1000 g
Túlípanar, 10 stk.
GLEÐILEGAN BÓNDADAG
1.598 kr. 500 g Bláber, fersk, 500 g
195 kr. stk.
798
Euro Shopper Þeytirjómi, 250 g
Calinda Jarðarber, fersk, 400 g
kr. 400 g
1.498 kr. kg
1.098 kr. kg
798
Bónus Grísalundir Ferskar
Bónus Grísakótilettur Ferskar
Bónus Grísahakk Ferskt
1.379 kr. kg
Bónus Beikon
598 kr. kg
kr. kg
Ali Grísabógur Ferskur
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 24. janúar eða meðan birgðir endast
14
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 14. janúar 2016
Fólk vill koma sér í strandskýluform ●●Fleiri í ræktina. Aldrei meiri aukning í byrjun árs, segir Ari í Sporthúsinu
Fann að ég var ekki á réttum stað
Þeim fer fjölgandi sem taka þá ákvörðun um jólahátíðina að byrja í ræktinni strax eftir áramót. Hjá Sporthúsinu í Reykjanesbæ æfa nú 17 prósent fleiri Ari Elíasson, en á sama tíma í eigandi fyrra. Að sögn Ara Sporthússins. Elíassonar, eiganda Sporthússins í Reykjanesbæ, hefur sú breyting orðið á að fólk skrái sig fyrr á námskeið en áður. „Núna var mikið um að fólk skráði sig á námskeið á milli jóla og nýárs. Áður hafa flestir skráð sig í fyrstu og annarri viku janúar en það er nú breytt sem er hið besta mál,“ segir hann. Hjá Sporthúsinu er 12 vikna áskorendakeppni í Superformi og þegar opnað var fyrir skráningu á milli jóla
og nýárs fylltist á námskeiðið á 30 klukkutímum. Einnig fylltist fljótt á grunnnámskeið í Crossfit sem byrjaði í janúar og kominn er biðlisti á annað námskeið sem hefst í febrúar. Ari kveðst ekki hafa upplifað slíka ásókn áður. „Við erum því bjartsýn og hlökkum til að takast á við þessa törn sem framundan er.“ Mörg námskeiðanna hjá Sporthúsinu eru í gangi allt árið og segir Ari það leggjast vel í fólk og að sífellt fleiri skrái sig á þau og stundi æfingar allt árið um kring. Ari segir fólk yfirleitt halda út í ræktinni og mæta vel fram í maí, þá fari aðeins að hægjast um og svo komi fjöldi fólks aftur þegar haustar. Það er ekki aðeins eftir jólin sem margir ákveða að taka sig á varðandi lífsstíl því Ari segir að í mánuð eftir páska sé alltaf góð törn. „Þá vill fólk koma sér í strandskýluform fyrir sumarið.“
●●Bakvörðurinn Elvar Már er að gera það gott í Miami eftir erfiða tíma í New York
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson hefur fundið fjölina sína á ný og leikur nú glimrandi körfubolta í í Miami með Barry háskólanum. Elvari hefur gengið vel að aðlagast eftir flutninga frá New York en þar lék hann í fyrra með LIU skólanum í Brooklyn. Þar átti hann ekki sjö dagana sæla og ákvað að skipta um skóla. Nú er hann með flestar stoðsendingar í 2. deild háskólakörfunnar sem verður að teljast mikið afrek. Hann segir námið vera krefjandi og ver hann miklum tíma yfir bókunum. Hann segir það hafa verið auðvelt að aðlagast liðinu en þar sé góð blanda af Evrópubúum og Könum og að sér hafi verið tekið opnum örmum. Elvar býr í Miami Shores sem er bær á NorðurMiami. Háskólasvæðið er á rólegum stað og tekur oftast um 15 mínútur að komast í eitthverja afþreyingu. Þetta er rólegt og þægilegt umhverfi að sögn Elvars. Gengið hefur verið gott í körfuboltanum. Liðið hefur á að skipa góðum sóknarmönnum svo Elvar er skora minna og sinna hlutverki leikstjórnandans betur með því að finna skot fyrir aðra. „Við erum með sterkt lið, höfum unnið marga leiki og erum eitt af 25 bestu liðum í landinu í annari deild. Ég er með gott hlutverk í liðinu og er að njóta þess vel að spila körfubolta.“
Ekki gaman í New York
Það sama var ekki uppi á teningnum í New York þar sem Elvar var ekki ánægður. „Ástæðan fyrir því að ég skipti um skóla var sú að ég hafði ekki gaman af því sem ég var að gera. Ég var kominn með leið á körfubolta, var ekki duglegur að æfa því ég fann ekki ánægjuna í því. Það var skrýtin tilfinning því ég hef verið í körfubolta alla mína ævi og var ekki að hafa gaman af því lengur. Fann svo að ég var ekki á réttum stað. Ég vildi reyna að finna stað sem mér myndi líða vel á og finna gleðina aftur. Svo ég ákvað að gefa Bandaríkjunum annan séns áður en ég myndi fara heim. Ég er sáttur við þá ákvörðun vegna þess að hingað til hef ég verið að njóta þess að spila körfubolta á ný og hef gaman af því sem ég er að gera.“
Hann segist hafa lært margt af veru sinni í Bandaríkjunum. „Helst þá að standa á eigin fótum og hjálpa sjálfum mér í gegnum hluti sem maður hefur ekki verið vanur að gera. Að þurfa kynnast öllu nýju hefur verið þroskandi reynsla,“ segir Elvar sem kann vel við sig í sólinni í Flórída.
Arnór Ingvi:
„Veltur allt á mér“ ●●Fyrsta landsliðsmarkið og möguleikarnir ● á að komast á EM
Stóð ekki til að koma heim
Þegar Njarðvíkingar misstu Stefan Bonneau í meiðsli þá kviknaði orðrómur um að Elvar kæmi aftur heim. „Að sjálfsögðu er alltaf freistandi að koma heim, þar finnst manni best að vera en það stóð aldrei til hjá mér þar sem ég nýt þess að spila körfubolta hér og stefni að því að klára námið hérna sem er mikilvægasti parturinn af þessu,“ segir Elvar aðspurður um hvort það hafi kitlað hann að koma til Njarðvíkur.
UMSÓKN UM PÁSKADVÖL Í ORLOFSHÚSI Hallkelshólar - Skorradalur - Apavatn Vestursíða 1a 603 Akureyri Búið er að opna fyrir umsóknir um dvöl í orlofshúsum Verkalýðsfélags Grindavíkur Opið verður fyrir umsóknir um dvöl um páskana frá 15. janúar til 29. janúar. Sækja þarf um á félagavefnum.
Skóli:
Barry University í Flórída fylki
Stig: 10,7 (3. í liðinu) Stoðsendingar: 8,1
(1. sæti í deild)
Mínútur: 32,3 (2. í liðinu) Stolnir boltar: 1,6 (1. í liðinu)
Sonur Reykjanesbæjar, Arnór Ingvi Traustason vakti enn og aftur athygli fyrir vasklega framgöngu með íslenska landsliðinu í fótbolta þegar liðið lék tvo æfingaleiki í Abu Dhabi fyrir skömmu. Arnór var ekki lengi að stimpla sig inn og skoraði sigurmark Íslendinga í 1-0 sigri á Finnum. „Það var mjög gott að ná að skora mitt fyrsta mark fyrir Ísland þó svo að það hafi verið í æfingaleik. Þetta er landsliðið og það er alltaf heiður að fá að spila fyrir þjóð sína og hefur verið
AÐALFUNDUR MÁNA Framhaldsaðalfundur Hestamannafélagsins Mána verður haldinn fimmtudaginn 4. febrúar 2016 kl. 20:00 í félagsheimili Mána. 1. Reikningar 2015 2. Félagsgjöld
Dagskrá:
Stjórn Mána
3. Reiðhöllin 4. Önnur mál
markmið mitt síðan ég man eftir mér,“ sagði Arnór í samtali við Víkurfréttir. Hann er óneitanlega inn í myndinni hjá þjálfurum liðsins en hann er þó ekki of mikið að hugsa til Frakklands þar sem Evrópukeppnin verður næsta sumar. „Ég reyni að hugsa sem minnst um EM þó svo að það sé mjög erfitt. Ég vil ekki gefa mér einhverja ákveðna möguleika. Það þarf bara að koma i ljós, svo veltur þetta allt á mér sjálfum að standa mig með mínu félagsliði.“
Stórsigur á Fjölni ■■Njarðvíkingar unnu stórsigur á Fjölni þegar liðin áttust við í 1. deild kvenna í körfubolta í gær. Munurinn varð á endanum 34 stig, 47:81 þar sem gestirnir frá Njarðvík höfðu yfirburði frá upphafi. Njarðvíkingar deildu stigaskorinu vel á milli sín og komust allir leikmenn á blað. Njarðvíkingar eru sem stendur í fjórða sæti deildarinnar með átta stig á meðan lið Skallagríms er taplaust á toppnum með 22 stig.
www.vf.is
fimmtudagur 14. janúar 2016
15
VÍKURFRÉTTIR
SMÁAUGLÝSINGAR Til leigu
5 herbergja íbúð til leigu í Reykjanesbæ fyrir reglusama fjölskyldu í fjölbýlishúsi. Sími 6926688.
RIMMAN UM REYKJANESBÆ
Það þarf ekkert að fjölyrða um hversu mikilvægur leikur Keflvíkinga og Njarðvíkinga í Domino’s deildinni í körfubolta er en hann verður í TM-höllinni á föstudagskvöld. Það eru fáir leikir eins þýðingarmiklir í íslenskum hópíþróttum eins og einmitt þessi. Keflvíkingar eru á toppi deildarinnar og hefur stöðugleikinn hjá liðinu verið til fyrirmyndar. Þeir eru með heitasta kana landsins og liðsheildin er gríðarlega sterk sem og samheldnin. Njarðvíkingar eru loksins orðnir fullmannaðir þegar febrúarmánuður er rétt handan við hornið. Þeir hafa
verið í basli eftir kanaskipti og nýlega kom nýr leikstjórnandi til liðsins. Njarðvíkingar hafa fengið Jeremy Atkinson til liðs við sig rétt í tæka tíð fyrir slaginn gegn Keflavík á morgun. Njarðvíkingar kannast vel við kauða sem reyndist þeim erfiður þegar hann lék með Stjörnunni í fyrra. Í fyrstu umferð úrslitakeppninnar skoraði hann tæp 27 stig í leik gegn þeim grænu. Hann tók auk þess 12 fráköst í leik og bauð upp á 32 framlagsstig í leik.
Höfum ekki efni á að rífa kjaft Teitur Örlygsson aðstoðarþjálfari liðsins segist himinlifandi með að fá Atkinson til liðsins og telur að hann komi til með að styrkja það töluvert. „Við vorum búnir að pæla í honum fyrr í vetur og núna þegar hitt gekk ekki upp þá var hann fyrsti kostur hjá okkur.“ Atkinson var ekki samningsbundinn neinu liði en Stjörnumenn ákváðu að semja ekki við hann aftur. Teitur segist ekki vita af hverju svo sé en hann hafi fengið bestu meðmæli frá Justin Shouse. „Hann er það sem við köllum „energy player“ og það er einmitt það sem okkur vantar. Það er kraftur í honum og það sem mestu skiptir er að hann leggur sig 100% fram í öllum leikjum og berst vel.“ Teitur þekkir þessa stóru leiki vel og þeir gerast vart stærri en gegn Keflavík. „Það væri ofboðslega gaman að gera Keflvíkingum skráveifu. Það myndi gera mikið fyrir móralinn hjá
„Keflavík er eitt besta sóknarliðið á landinu og við verðum að stoppa þeirra lykilmenn. Ég held að hæfileikarnir séu til staðar í okkar liði en menn verða að leggja sig fram af öllum mætti, þá oftar en ekki gerast góðir hlutir. Ég efast ekki eitt augnablik um að við verðum tilbúnir á föstudaginn.“
okkur þó svo að þessi tvö stig séu alveg jafn mikilvæg og hver önnur,“ segir Teitur en hann telur sína menn vera tilbúna í bardagann á morgun.
Það vill oft verða þannig að skot ganga manna á milli fyrir þessa leiki. Keflvíkingar hafa verið duglegir að notast við samskiptamiðilinn Snapchat þar sem þeir skjóta létt á Njarðvíkinga. „Keflvíkingar eru byrjaðir að skjóta á okkur á samfélagsmiðlunum og það er mjög skemmtilegt. Við viljum láta verkin tala eins og staðan okkar er. Við höfum ekkert efni á því að rífa kjaft svona eins og Keflavík er að gera í dag og þegjum því bara þunnu hljóði og mætum á föstudaginn og gefum þeim góðan leik.“
Nettur Hraðlestarbolti í boði fyrir áhorfendur Leikstjórnandi Keflvíkinga býst við hröðum og skemmtilegum leik. Hann segir að Keflvíkingar séu ekki sérstaklega að spá í því að Njarðvíkingar séu nú komnir með erlendan leikmann. „Það mun þó gera leikinn skemmtilegri fyrir alla. Við leggjum ekkert áherslu á hin liðin heldur að fókusera á að spila á okkar leik. Það er öruggt að þeir verða okkur erfiðir í leiknum. Þetta verður stál í stál eins og þeir segja.“ Valur segir að helsti kostur Keflvíkinga hingað til hafi verið stöðuleiki. Þeir hafi alltaf náð að spila sinn bolta og samheldin sé meiri en undanfarin ár. Hann segir áhorfendur mega búast við skemmtilegum leik „Fólk veit að það verður mikið „run & gun“ hjá okkur sem er hefðbundinn Keflavíkurbolti.
Nettur Hraðlestarbolti mætti jafnvel segja. Það vita allir sitt hluverk hjá liðinu og eru sáttir við sitt hlutskipti,“ segir varafyrirliðinn sem leikið hefur frábærlega í vetur. Hann segir menn ekki ræða leikinn neitt sérstaklega en allir viti um hvað málið snýst. „Ég held að hver og einn viti hvað er í húfi. Það er svo á leikdegi sem maður gírar sig upp fyrir þennan leik,“ segir Valur en hann telur þessar rimmum ekki ósvipaðar og bikarleiki þar sem allt er undir. „Það er öðruvísi orka í manni þá viku sem þessir leikir eru. Maður hugsar um þetta alla vikuna það er alveg klárt. Ég finn það þegar svona stórir leikir eru framundan þá hefur maður þessa auka orku sem brýst fram.“ Varðandi skot liða á milli í aðdraganda leiksins þá segist Valur
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla
SUNNUDAGUR 24. JANÚAR KL. 11:00 Sunnudagaskóli og messa. Söngurhópurin Vox Felix syngur. Súpa og brauð í boði. Prestur er Erla Guðmundsdóttir. ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR KL. 20:00 Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur, verður með erindi um sorg og sorgarvinnu í kirkjunni. MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR KL. 12:00 Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar. Súpa og bauð í boði kr. 500. FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR KL. 16:00 Fermingarfræðsla í kirkjunni fyrir stráka og stelpur með prestum og organista
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR KL. 20:00 Sorgarhópur í umsjón sr. Evu Bjarkar Valdimarsdóttur
Verið velkomin
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Æðruleysismessa kl. 19:30 nk. Sunnudag. Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
m Sæktu u í dag! ÞJÓNUSTUFULLTRÚI Í BÍLALEIGU Í KEFLAVÍK
Thrifty Car Rental, bílaleiga Brimborgar, leitar að röskum og jákvæðum starfsmanni í starf þjónustufulltrúa á starfsstöðvar í Keflavík. Skemmtilegt og krefjandi starf í líflegu umhverfi. Stutt lýsing á starfi: • Afhending bíla til erlendra sem innlendra viðskiptavina og móttaka við leiguskil • Upplýsingagjöf og sala þjónustu • Skráning bókana • Skutl viðskiptavina til og frá starfstöð Hæfniskröfur: • Stúdentspróf og/eða reynsla af sambærilegu starfi • Hæfni í tölvunotkun • Gilt bílpróf og vera jafnvíg(ur) á beinskiptan og sjálfskiptan bíl • Framúrskarandi þjónustulund • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta Unnið er á vöktum 06:00-18:00 og frá 18:00-06:00 (5/4). Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið má finna undir Laus störf á brimborg.is Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2016
hafa mjög gaman af því. Flestir leikmenn úr báðum séu ágætis félagar en vinskapurinn fær þó að fjúka á meðan leik stendur. „Mér finnst alltaf gaman þegar menn eru með svona skot en ég held að þetta sé nú bara í léttu gríni fyrir leik,“ segir Valur að lokum fullur tilhlökkunar.
FÖSTUDAGINN, 22. JANÚAR KL. 19:15 ÁFRAM KEFLAVÍK
GRILLAÐIR HAMBORGARAR FYRIR ALLA HEIMALEIKI
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001
Mundi
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
Er Kjartan bæjarstjóri að fara sömu leið og Herbert söngvari, ná í peninga hjá bæjarbúum.
Próflaus og útúr dópaður með kylfu í bílnum ■■Ökumaður á þrítugsaldri, sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í vikunni, reyndist vera undir áhrifum amfetamíns, metamfetamíns og kannabisefna við aksturinn, auk þess sem hann hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Þá var bifreiðin sem hann ók ótryggð og óskoðuð. Maðurinn framvísaði amfetamíni sem var í bifreiðinni, auk þess sem lögreglumenn fundu útdraganlega kylfu í hólfi í henni. Skráningarnúmerin voru fjarlægð af bifreiðinni. Tveir ökumenn til viðbótar, sem lögreglan hafði afskipti af reyndust einnig vera undir áhrifum fíkniefna. Í húsleit á dvalarstað annars þeirra fundust meint fíkniefni í sölupakkningum, að hluta til meint MDMA. Einnig munir sem bentu til dreifingar og sölu fíkniefna og fjármunir sem voru haldlagðir.
Stolinn bíll, hakakrosstöflur og hvítt í krukku
WWW.NISSAN.IS
Don't enlarge the this template. The size of this template can be reduced.
NISSAN QASHQAI EINN VINSÆLASTI SPORTJEPPI LANDSINS
Bæjarstjóri vill koma í heimsókn ■■Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson, mun heimsækja allar stofnanir og deildir Reykjanesbæjar í janúar og febrúar til að veita bæjarbúum upplýsingar. Þessar heimsóknir standa einnig almennum vinnustöðum og Kjartan Már hópum í ReykjaKjartansson nesbæ ti l b o ða. Þeir atvinnurekendur eða forstöðumenn sem vilja fá heimsókn bæjarstjóra geta haft samband við verkefnastjóra upplýsingar- og kynningarmála hjá Reykjanesbæ í netfangið svanhildur.eiriksdottir@reykjanesbaer.is eða síma 421-6700 til að bóka heimsókn bæjarstjóra.
*Miðað við uppgefnar tölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri. / Aukabúnaður í mynd: Álfelgur
■■Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði talsvert magn fíkniefna í vikunni í kjölfar þess að ökumaður hafði verið handtekinn, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sýnatökur á lögreglustöð staðfestu neyslu hans á metamfetamíni og kannabis. Við öryggisleit á farþega sem var í bifreiðinni fannst mikið magn kannabisefna í buxum hans. Hann var einnig handtekinn. Þá kom í ljós að bifreiðin var á skráningarnúmerum sem hafði verið stolið af annarri bifreið fyrir nokkru. Að handtökum loknum var gerð húsleit á dvalarstað ökumannsins, að fenginni heimild til húsleitar. Þar fundust hakakrosstöflur, hvítt efni í krukku. Einnig hvítt efni í plastpoka og meintir sterar. Jafnframt ýmis tól og tæki sem gáfu til kynna að þar færi fram pökkun og sala fíkniefna. Ökumaðurinn játaði eign sína á efnunum og stuld á skráningarnúmerum af bifreið í Reykjavík.
TIL AFGREIÐSLU STRAX Nissan Qashqai er einn tæknilegasti sportjeppi sem völ er á og hlaðinn aukabúnaði svo sem sjálfvirkum aðalljósum, 17" álfelgum, leiðsögukerfi með Íslandskorti, bakkmyndavél, Google og Facebook samþættingu við snjallsíma svo eitthvað sé nefnt. Verið velkomin í reynsluakstur.
Verð: 3.990.000 kr.
Verð: 4.590.000 kr.
Verð: 4.990.000 kr.
NISSAN QASHQAI ACENTA
NISSAN QASHQAI ACENTA
NISSAN QASHQAI ACENTA
Framhjóladrifinn, 1,5 dísil, beinskiptur Eyðsla 3,8 l/100 km*
GE bílar - Umboðsaðili BL Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400
Framhjóladrifinn, 1,6 dísil, sjálfskiptur Eyðsla 4,6 l/100 km*
Fjórhjóladrifinn, 1,6 dísil, beinskiptur Eyðsla 4,9 l/100 km*
W W W.GEBIL AR.IS SÍMI 4200400