• fimmtudagurinn 19. janúar 2017 • 3. tölublað • 38. árgangur
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Á besta tíma!
Suðurnesjamagasín Sjónvarps Víkurfrétta hefur fengið nýjan sýningartíma á
kl. 20:00 og 22:00
fimmtudagskvöldum á Hringbraut Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00
Ung kona lést í slysi á Grindavíkurvegi
●●Þrjú banaslys á Grindavíkurvegi síðan árið 2002 l Umferð um veginn hefur aukist ● um 53,6 prósent á fjórum árum l Einn af áhættumestu vegum landsins
Brýnt að aðskilja akreinar á Grindavíkurvegi Banaslys varð á Grindavíkurvegi á fimmtudagsmorgun í síðustu viku þegar tveir bílar lentu í árekstri. Banaslysið er það þriðja á veginum síðan árið 2002. Samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu hafa orðið 18 alvarleg slys á veginum síðan árið 2002. Grindavíkurvegurinn er einn af áhættumestu vegum á landinu miðað við umferðarmagn og slysasögu áranna 2009 til 2014. Hann er í sjöunda sæti yfir þá vegi sem flest slys verða á, að sögn Ólafs Guðmundssonar,
FÍTON / SÍA
Undirstöður gamla vitans á Garðskaga eru farnar að láta mikið á sjá. Áhugamaður um vitann segir að síðustu mánuði hafi molnað talsvert úr steyptum undirstöðum vitans sem hefur verið útvörður Garðskaga frá árinu 1897 eða í 120 ár á þessu ári. Þung hafaldan lemur á undirstöðunum og í vetur hefur sjórinn jafnvel gengið upp á land og má sjá það af þangi og grjóti sem hefur skolað yfir sjóvarnargarða. Nýlega var lokið við viðgerð á sjóvarnargarðinum vestan við gamla vitann. Viðmælandi blaðsins segir að mjög fljótlega þurfi að ráðast í viðgerðir á vörnum gamla vitans. Hann sé friðaður og því þurfi væntanlega að steypa varnirnar eins og þær voru áður en ekki hlaða grjóti umhverfis vitann.
einföld reiknivél á ebox.is
tæknistjóra EuroRAP á Íslandi. Árið 2012 keyrðu að meðaltali 2755 bílar um Grindavíkurveg, framhjá Seltjörn, en árið 2016 var fjöldinn kominn upp í 4232 og er fjölgunin því 53,6 prósent. „Umferð um Grindavíkurveg hefur aukist mjög mikið undanfarin ár. Eðli umferðar og áhætta breytist þegar fjöldi bíla á sólarhring fer yfir fjögur til fimm þúsund líkt og gerst hefur þarna. Þegar fjöldi bíla á vegi er orðinn svona mikill þá aukast mjög mikið lík-
urnar á að fari ökumaður yfir á rangan vegahelming þá lendi hann á öðrum bíl. Það er því brýnt að aðgreina gagnstæðar aksturstefnur til dæmis með víravegriði en þannig yrði hægt að koma í veg fyrir framanáakstur,“ segir hann. Ólafur segir ljóst að rannsaka þurfi Grindavíkurveg og þá sérstaklega þann vegakafla þar sem áreksturinn varð í síðustu viku, rétt norðan við Bláa lónið. „Það hefur verið rætt um að gufa frá virkjuninni geti sest á
veginn, þannig myndast hálka og það þyrfti að rannsaka.“ Mjög líklega sé vatn undir hrauninu og mikill raki þaðan sem gufar upp. Við þetta aukast líkur á hálkumyndun til muna. EuroRAP er eftirlitskerfi með öryggi vega í Evrópu og eru aðildarfélögin FÍB og systurfélög þess í álfunni. Vegir er skoðaðir á vegum EuroRAP og ástand þeirra metið eftir stöðluðu alþjóðlegu kerfi sem greinir öryggi þeirra.
Undirstöður gamla vitans molna
Vitarnir á Garðskaga. Undirstöður gamla vitans farnar að láta á sjá og hefur molnað talsvert úr þeim á síðustu mánuðum. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
• • •
■■Banaslys varð á Grindavíkurvegi á fimmtudagsmorgun í síðustu viku, þann 12. janúar. Tveir bílar sem komu úr gagnstæðum áttum og lentu harkalega saman. Ökumaður í öðrum bílnum, 18 ára stúlka, lést í slysinu. Einn úr hinum bílnum var fluttur á sjúkrahús, alvarlega slasaður. Stúlkan sem lést hét Alma Þöll Ólafsdóttir, til heimilis í Grindavík. Sett hefur verið af stað söfnun fyrir fjölskyldu hennar. Þeir sem vilja leggja söfnuninni lið geta lagt inn á bankabók í nafni Óla Björns Björgvinssonar, kennitala 1111675409, reikningsnúmer 0143-05060699.
Ósakhæfir og sendir úr landi eftir áreiti í strætisvagni ■■Í vikunni var óskað eftir lögregluaðstoð að strætisvagnastöð við Krossmóa í Reykjanesbæ vegna manns sem hefði leitað á unga stúlku í strætisvagni. Nokkrir unglingar voru í vagninum sem höfðu orðið vitni að þessari ósæmilegu hegðun mannsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Lögreglan hafði upp á þeim grunaða sem reyndist vera jafnaldri stúlkunnar, 14 ára gamall drengur, sem hafði verið í vagninum ásamt öðrum dreng á svipuðu reki. Munu drengirnir hafa haft ákveðna samvinnu við að króa stúlkuna af í sæti sínu og annar þeirra áreitt hana. Þá mun drengurinn hafa slegið til og kastað flösku í dreng sem hafði afskipti af honum vegna málsins. Drengurinn var færður á lögreglustöð þar sem rætt var við hann að fulltrúa barnaverndarnefndar viðstöddum. Í tengslum við málið bárust lögreglu þær upplýsingar að síðastliðinn mánudag hefði hinn drengurinn, sá sem ekki hafði sig í frammi í þessu tilviki, viðhaft svipaða hegðun í strætisvagni gagnvart annarri stúlku. Drengirnir eru börn og ósakhæfir vegna aldurs og verður því ekki aðhafst frekar í málum þeirra af hálfu lögreglu. Þeir voru hælisleitendur hér á landi en munu hafa farið af landi brott degi eftir atvikið.
Sala bíla Sala varahluta Verkstæðisþjónusta
590 5090
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eftirfarandi:
u og tegund –
eftirfarandi:
2
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 19. janúar 2017
Kynning á lýsingu verkefnis að breytingu á deiliskipulagi Reykjanesvita og nágrennis Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt heimild til að vinna að breytingu á deiliskipulagi Reykjanesvita og nágrennis. Auglýst er lýsing skipulagsverkefnis skv. 2. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsingin er aðgengileg á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Einnig er opið hús kl. 13-15 á bæjarskrifstofum, Tjarnargötu 12 þann 26. janúar. Skipulagsgögn munu liggja frammi og þar er hægt að koma á framfæri ábendingum og fá svör við spurningum. Breyting á deiliskipulagi snýr að umfangi tjaldsvæðis og stærð skipulagssvæðis. Athugasemdafrestur er til 9. febrúar nk. Hægt verður að senda ábendingar á skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar, sveinn.numi. vilhjalmsson@reykjanesbaer.is. Reykjanesbæ, 18. janúar 2017. Skipulagsfulltrúi
HSS FISKVERKUN
ATVINNA
Óskum eftir starfsfólki í fiskvinnslu í Reykjanesbæ. Okkur vantar fólk í hefðbundin fiskvinnslustörf og einnig vantar starfsmann til að sjá um dagleg þrif á tækjum og í sal eftir að vinnslu lýkur. Áhugasamir hafi samband í síma 852-2272.
NÁMSKEIÐ
„Stórfyrirtækjum verður ekki ívilnað meir með peningum skattgreiðenda til þess að fá að menga hér stjórnlaust,“ segir Björt Ólafsdóttir, nýskipaður auðlinda- og umhverfisráðherra.
Nýr umhverfisráðherra ekki hrifin af kísilverum Björt Ólafsdóttir, sem í síðustu viku tók við embætti umhverfis- og auðlindaráðherra, segir tíma mengandi stóriðju liðinn. „Ég er ekki hrifin af kísilverum þar sem þau menga mjög mikið. Ég skil ekki að þeim hafi á sínum tíma verið gefið grænt ljós í gegnum fjárfestingarsamninga af þáverandi stjórnvöldum. Ég verð hins vegar að virða stjórnskipan landsins,“ sagði hún í viðtali við Vísi. Á Facebook-síðu sinni kveðst Björt auðmjúk taka við stóra verkefni að vera auðlinda- og umhverfisráðherra. „Nú verður sagt stopp við þessu. Stórfyrirtækjum verður ekki
Hreinsuðu 18 tonn af rusli 10000
fyrir einstaklinga með sykursýki á vegum sykursýkismóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Námskeið ætlað einstaklingum með sykursýki tegund 2 hefst 6. febrúar. Það verður á mánudögum milli kl. 17:00 og 19:00 í sex skipti. Fyrirlesarar verða læknir, hjúkrunarfræðingar, næringarfræðingur, sálfræðingur og sjúkraþjálfari.
8000
Námskeið ætlað aðstandendum verður haldið 2. mars frá kl. 16:00 - 19:00. Fyrirlesarar verða hjúkrunarfræðingar og næringarfræðingur. Námskeið ætlað einstaklingum með sykursýki tegund 1 hefst 2. maí það verður á þriðjudögum kl. 16:00 - 19:00 í þrjú skipti. Fyrirlesarar verða læknir hjúkrunarfræðingar, næringarfræðingur, sálfræðingur og sjúkraþjálfari. Hægt er að fá nánari upplýsingar og skrá sig á námskeiðin með því að hringja í afgreiðslu HSS og láta setja sig á símatíma hjá hjúkrunarfræðingum sykursýkismóttökunnar eða senda tölvupóst á hafdis@hss.is eða berglind@hss.is.
6000
4000
2000
WWW.VF.IS
ívilnað meir með peningum skattgreiðenda til þess að fá að menga hér stjórnlaust, skrifaði ráðherrann við frétt um að kísilver á Bakka muni nota 66 þúsund tonn af kolum árlega. Í nóvember síðastliðnum tók kísilver United Silicon til starfa í Helguvík. Starfsemin þar er umdeild og hefur borist lyktar- og reykmengun frá verksmiðjunni yfir byggð. Áætlað er að kísilver Thorsil í Helguvík hefji framleiðslu eftir tvö ár. Frestur til að skila inn athugasemdum við veitingu starfsleyfis til Thorsil rann út í síðustu viku.
0
●●Kynnir starfsemi Bláa hersins fyrir forseta Íslands Hreinsuð voru 18 tonn af rusli á vegum Bláa hersins á síðasta ári. Meðal verkefna var að hreinsa Sandvíkina tvisvar sinnum og fjarlægja 680 kíló af rusli. Á Ásbrú voru þrjú hreinsunarverkefni á vegum Bláa hersins á síðasta ári og rúmlega tonn af rusli fjarlægt þaðan. Þá var haldinn árlegur hreinsunardagur við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli með starfsmönnum Isavia og 120 iðkendum íþróttafélaga á Suðurnesjum og foreldrum þeirra þar sem hreinsuð voru 2,6 tonn af rusli. Tómas Knútsson, forsvarsmaður Bláa hersins, hefur verið óþreytandi við að skipuleggja hreinsunarverkefni og sömuleiðis við að vekja athygli á
rusli í sjónum og við strendur landsins. Tómas segir mikið streð að safna styrkjum til starfsins og sjálfur hefur hann unnið mikið hreinsunarstarf í sjálfboðavinnu í gegnum tíðina. Líkt og greint var frá í Víkurfréttum síðasta haust stefnir hann að því koma starfinu í annað horf og fá fólk í stjórn Bláa hersins og finna öfluga bakhjarla til framtíðar. Hann segir þau áform ganga ágætlega, það sé allt á réttri leið en að tíma taki að ná því markmiði. Tómas mun eiga fund með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, í lok vikunnar og kynna fyrir honum starfsemi Bláa hersins.
markhönnun ehf
Sparaðu með okkur... -30% Lamba prime hvítlauk og rósmarín
3.149
KR KG
Áður: 4.498 kr/kg
Lambamjaðmasteik
-25%
úrbeinuð
2.249 KRKG
Áður: 2.998 kr/kg
-30% Kjúklingabringur
1.888
ÓDÝRT í
694
KR KG
Áður: 2.098 kr/kg
Kjúklingabringur
Kjúklingaleggir
Danskar - 900 gr.
Súpukjöt
Áður: 1.698 kr/pk
Áður: 998 kr/kg
699 KRKG
1.358 KRpK
KR KG
Áður: 798 kr/kg
Sjúklega gott og girnilegt með kaffinu!
COOP sultur á tilboði
-50%
299 kr.
-25% Jarðarber
Jurtarjómi
Sveita Vöfflumix
250 gr.
Sprautu - 250 ml.
450 gr
Áður: 499 kr/pk
Áður: 289 kr/pk
Áður: 429 kr/pk
374 KRpK
199 KRpK
Gulrófur
99
399 KRpK
KR KG
Áður: 198 kr/kg
Gulrófur á tilboði
Þú færð þorramatinn hjá okkur -20% Þorrabakki
1.898 KRpK KR Stór 2.498 pK Lítill
Lambasvið
398
KR KG
Áður: 498 kr/kg
Súrmatur í fötu
Pizza
700 gr.
340 gr. - 3 tegundir
1.898
KR KG
www.netto.is | Tilboðin gilda 19. – 22. janúar 2017
498 KRpK
Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana. Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hafnarfjörður · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss
4
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 19. janúar 2017
Útskriftarhópurinn frá Keili í janúar 2017. Ljósmynd: Oddgeir Karlsson.
KEILIR ÚTSKRIFAR 126 NEMENDUR OG FAGNAR STÓRAFMÆLI Keilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs útskrifaði 126 nemendur við hátíðlega athöfn í Andrews Theater á Ásbrú föstudaginn 13. janúar. Við athöfnina voru útskrifaðir nemendur Háskólabrúar, atvinnuflugmannsnemendur og flugvirkjanemar AST og Keilis, auk nemenda úr ÍAK einkaþjálfaranámi. Keilir hóf starfsemi 4. maí 2007 og fagnar því tíu ára afmæli á þessu ári, en samtals hafa 2.799 aðilar útskrifast úr deildum skólans á þessum tíma. Í tilefni af afmælisárinu hefur skólinn safnað sögum og viðtölum við hluta
þeirra nemenda sem hafa stundað nám í Keili og birt á heimasíðunni www.keilir.net/10ara. Fram að afmæli skólans í maí munu vikulega bætast við sögur og kynningar á nemendum á þessari vefsíðu. Háskólabrú Keilis útskrifaði í allt 75 nemendur. Berglind Kristjánsdóttir, forstöðumaður Háskólabrúar, flutti ávarp. Dúx var Olga Kristín Jóhannesdóttir með 9,71 í meðaleinkunn, en það er hæsta meðaleinkunn af Háskólabrú frá upphafi. Fékk hún bók frá Íslandsbanka og spjaldtölvu frá Keili sem viðurkenningu fyrir góð-
an námsárangur. Gunnlaugur Máni Hrólfsson fékk viðurkenningu frá HS orku fyrir framúrskarandi námsárangur af verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar með 9,06 í meðaleinkunn. Kristbjörg Halla Magnúsdóttir flutti ræðu útskriftarnema. Með útskriftinni hafa samtals 1.496 nemendur útskrifast úr Háskólabrú Keilis og hafa lang flestir þeirra haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis. 29 atvinnuflugmenn og 19 flugvirkjar útskrifuðust frá Flugakademíu Keilis og er þetta einn fjölmennasti
útskriftarhópur atvinnuflugnema frá upphafi. Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíu Keilis, flutti ávarp og afhenti atvinnuflugmönnum prófskírteini ásamt Snorra Pál Snorrasyni, skólastjóra Flugakademíunnar. Marie Laure Jeanne E. Parsy fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í atvinnuflugmannsnámi með 9,54 í meðaleinkunn. Fékk hún gjafabréf frá WOWair og bók frá Icelandair. Nú hafa 157 atvinnuflugmenn útskrifast frá Keili frá upphafi skólans. Þá útskrifaði Flugakademían í annað sinn flugvirkjanema frá Keili, en boðið
ATVINNA Húsagerðin er vertakafyritæki í almennri mannvirkjagerð. Hjá okkur eru ýmis störf í boði
Æskilegt að ferilskrá eða upplýsingar um fyrri störf fylgi umsókn Nánari upplýsingar veitir Áskell í 892-3590.
hf BYGGINGAVERKTAKAR
Í 45 ÁR
Að auki útskrifuðust þrír nemendur úr ÍAK einkaþjálfaranámi Íþróttaakademíu Keilis.
Hjólreiðastígur yfir Vogastapa lagður á árinu
Smiði , nema og verkamenn.
Umsókn sending á askell@husagerdin.is
er upp á námið í samvinnu við AST (Air Service Training) í Skotlandi. Björn Pálsson fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í flugvirkjanáminu með 9,4 í meðaleinkunn. Fékk hann gjafabréf frá WOWair og bókagjöf frá Isavia. Með útskriftinni hafa 41 nemandi lokið flugvirkjanámi við skólann. Ásbjörn Halldór Hauksson flutti ræðu útskriftarnema fyrir hönd Flugakademíu Keilis.
Sprungan á Valahnúk hefur stækkað Hluti Almannavarnanefndar Suðurnesja fór á mánudag í skoðunarferð að Valahnúki á Reykjanesi ásamt fulltrúum Reykjanes UNESCO Global Geopark, Reykjanesbæjar og Markaðsstofu Reykjaness til þess að skoða sprungu sem myndast hefur á Valahnúki og meta ástand hennar. Á upplýsingasíðu Ferðaþjóna á Reykjanesi á Facebook segir að sprungan, sem er um 20 metra löng sé 7 til 10 metra frá brún Valahnúks þar sem hann er hæstur. Hún er nokkuð breið þar sem hún er breiðust, allt að 60 cm. Sprungan hefur stækkað og gliðnað mikið á
undanförnum tveimur árum. Þá segir að útlit sé fyrir að brotnað hafi úr hnúknum nýlega. Ástandið á Valahnúk er enn metið þannig að fólki kunni að stafa hætta af því að vera nálægt sprungunni og því verður áfram lokað fyrir uppgöngu á Valahnúk. „Unnið er að úrbótum og bættum merkingum vegna þessa en biðjum við gesti um að virða lokanir. Við biðjum fólk um að vera vakandi fyrir breytingum á svæðinu. Hægt er að koma ábendingum á framfæri á netfangið info@reykjanesgeopark.is,“ segir á síðu Ferðaþjóna á Reykjanesi.
■■Eitt af þeim verkefnum sem ráðist verður í á árinu 2017 er framkvæmd við lagningu hjólreiðastígs yfir Vogastapa. Með því móti verður komin á góð tenging hjólandi og gangandi vegfarenda milli Voga og Reykjanesbæjar, og hið góða stígakerfi sem þar er til staðar. Lagning stígsins er að auki liður í þeirri viðleitni að bjóða hjólreiðamönnum sem ferðast milli höfuðborgarsvæðisins og flugstöðvarinnar upp á þann valkost að hjóla ekki eftir Reykjanesbrautinni. Góðar tengingar eru allt frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gegnum Reykjanesbæ að lögsögumörkum Voga, á Vogastapa. Með lagningu stígs þaðan að Vogum geta hjólreiðamenn haldið áfram för sinni um Vatnsleysustrandarveg, sem leið liggur inn að Hvassahrauni. Í fyllingu tímans verður svo vonandi komið á tengingu frá Hvassahrauni að Straumi, en góðar stígatengingar inn á höfuðborgarsvæðið eru frá álverinu í Straumsvík.
ÍSLENSKA SIA.IS ICE 81533 01/17
BENTU Í AUSTUR 17.400* Verð frá kr. Þessi ferð gefur frá 2.100 til 6.300 Vildarpunkta aðra leiðina.
Er París þín borg? París fer aldrei úr tísku. Þessi tigna og virðulega aðalsfrú kann svo sannarlega að meta listir, góðan mat, menningu – og er ávallt óaðfinnanleg í tauinu. Bentu í austur. París bíður eftir þér.
Þú getur bæði notað og safnað Vildarpunktum um borð.
* Innifalið: Flug aðra leiðina og flugvallarskattar.
6
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 19. janúar 2017
RITSTJÓRNARPISTILL Páll Ketilsson
EINN HÆTTULEGASTI VEGUR LANDSINS Það er óhætt að segja að tilfinningar meðlima Stopp-hópsins sem valdir voru „Menn ársins á Suðurnesjum“ hafi verið blendnar en sama dag og Víkurfréttir komu út í síðustu viku og þeir fóru að fá hamingjuóskir fyrir árangurinn varð hörmulegt banaslys á Grindavíkurvegi. Ung stúlka, í blóma lífsins, lést í bílslysi. Ísak Ernir Krstinsson, talsmaður Stopp-hópsins skrifaði á Facebook síðu sína eftirfarandi: „Andstæðurnar í lífinu geta varla verið skýrari. Á sama degi og við fáum viðurkenningu fyrir að berjast fyrir auknu umferðaöryggi á Suðurnesjum á sér stað banaslys. Grindavíkurvegur er sennilega hættulegasti vegur landsins miðað við umferðarþunga. Við munum ekki láta okkar eftir liggja í að þrýsta á umbætur! Hugur okkar allra er hjá aðstandendum og fjölskyldu.“ Banaslysið er það þriðja á veginum frá árinu 2002 og samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu hafa orðið 18 alvarleg slys á veginum síðan árið 2002. Grindavíkurvegurinn er einn af áhættumestu vegum á landinu miðað við umferðarmagn og slysasögu áranna 2009 til 2014. Hann er í sjöunda sæti yfir þá vegi sem flest slys verða á. Umferð um veginn hefur aukist gríðarlega með tilkomu fleiri ferðamanna. Rætt er um að rannsaka þurfi Grindavíkurveg og þá sérstaklega þennan kafla sem slysið varð á, rétt norðan við Bláa Lónið. Hugsanlegt sé að hálka myndist oftar vegna gufu frá Svartsengisvirkjun og einnig komi raki undan hrauninu. Þannig aukist líkur á hálkumyndun á veginum. Þetta er haft eftir Ólafi Guðmundssyni, tæknistjóra EuroRAP á Íslandi en EuroRAP er eftirlitskerfi með öryggi vega í Evrópu. Miðað við þessar upplýsingar ætti einnig að skoða bráðabirgða lausnir í þessu sambandi, eins og að vekja athygli á þessari hættu, til dæmis með skiltum, þannig að ökumenn aki hægar og varlegar. Það er ljóst að umbætur í samgöngum gerast hraðar ef raddir fólksins heyrast hærra. Suðurnesjamenn hafa ítrekað bent á hættuna á Grindavíkurvegi. Meðlimir Stopp-hópsins hafa verið í þeim hópi. Eins og blasir við þarf úrbætur á Reykjanesbraut að flugstöð en það þarf líka að ráðast í úrbætur á Grindavíkurvegi. Reynslan segir okkur það. Suðurnesjamenn eiga að halda áfram að hvetja Stopp-hópinn í þeirra verkefnum í samgöngum. Það er aldrei nóg.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, sími 421 0002, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www. vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
„Mini Maggi Texas“: Magnús Máni hitti í mark í gervi nafna síns í Texasborgurum.
BRÁÐFYNDINN
búningasmiður ●●Hinn tíu ára Magnús Máni slær öllum við á þrettándanum í Grindavík Hann var eitthvað kunnuglegur kappinn sem tók á móti blaðamönnum Víkurfrétta í íbúðarhúsi í Grindavík í vikunni. Svo virtist sem sjálfur Maggi á Texasborgurum væri mættur á svæðið en þó aðeins smærri í sniðum. Þarna var hins vegar á ferðinni nafni þess á Texasborgunum, nefnilega hinn
PÁSKA OG SUMARÚTHLUTUN Starfsmannafélag Suðurnesja auglýsir orlofshús félagsins laus til umsóknar. Umsóknarfrestur vegna Páska er til 17. febrúar 2017. Úthlutað 22. febrúar 2017 Umsóknarfrestur vegna Sumars er til 31. mars 2017. Úthlutað 3. apríl 2017.
Um er að ræða eftirtalin orlofshús: Munaðarnes 3 hús með heitum potti Verð: 19.000,- - 30.000,-
Reykjaskógur 1 hús með heitum potti Verð: 30.000,-
Akureyri 2 íbúðir Verð: 25.000,-
Páskaúthlutun er frá 13. apríl til 20. apríl 2017. Sumarúthlutun er frá 2. júní til 18. ágúst 2017 (vikuleiga) Ath. Örfá tímabil laus í húsi félagsins á Spáni í sumar Hægt er að sækja um orlofshús á vef félagsins www.stfs.is Eða vera í sambandi við starfsfólk á skrifstofu félagsins að Krossmóa 4, 260 Reykjanesbæ. Sími 421 2390. Orlofsnefnd STFS
Auglýsingin er einnig á vefsíðu okkar www.stfs.is
tíu ára gamli Magnús Máni Magnússon sem nýlega sigraði búningakeppni á þrettándanum í Grindavík í þriðja sinn. Magnús leggur mikinn metnað í að fá ferskar hugmyndir og í framhaldinu útbýr hann búninga þar sem hvert einasta smáatriði er úthugsað. Hann féll fyrir Magga í Texasborgurum þegar kokknum glaðlynda brá fyrir í áramótaskaupinu. Hann vissi þó af honum og fannst til dæmis mjög fyndið viðtalið þar sem Texas Maggi fræðist um gúmmitré. Það var ekki mikið vandamál að smíða búninginn eftir að hugmyndin fæddist. Kokkabúningurinn og hatturinn voru til staðar en skeggið kemur af hesti sem Sindri yngri bróðir Magnúsar á. Keyptir voru hamborgarar og þeir skreyttir sérstaklega, þeir áttu jú að líta út fyrir að vera myglaðir að sögn Magnúsar. „Ég reyni að hafa eitthvað sem er frekar erfitt að gera og hefur verið að gerast á árinu og er fyndið,“ segir búningasmiðurinn ungi. Magnús og Sindri, yngri bróðir hans, hafa verið sigursælir í keppni um flottasta búninginn síðustu ár í Grindavík. Svo sigursælir að grínast hefur verið með það í Grindavík að hafa sérstakan flokk bara fyrir þá tvo bræðurna. „Sem betur fer erum við í sitt hvorum flokknum,“ segir Magnús léttur í bragði. Fólk er jafnvel byrjað að velta því fyrir sér hvaða búning Magnús ætlar að setja saman löngu fyrir þrettándann en mikið er lagt upp úr deginum í Grindavík og löng hefð er fyrir því að klæða sig upp og ganga í hús og sníkja sælgæti í bænum. Þeir bræður Magnús og Sindri hafa klæðst ýmsu í gegnum tíðina. Þeir brugðu sér
meðal annars í líki skítugu bræðranna Magnúsar og Eyjólfs, sem Laddi og Karl Ágúst gerðu ódauðlega. Bræðurnir hafa líka klæðst sem raketta, hakk og spagettí eða dótakassi svo fátt eitt sé nefnt.
Erfitt að vera Almar í kassanum
Í fyrra var Magnús klæddur upp sem Almar í kassanum, sem hafði þá vakið mikla athygli í samfélaginu. Sá búningur var erfiður í smíðum en Magnús vann ötullega að því að gera kassann þannig að hann gæti nú flakkað milli húsa og safnað sælgæti. Til þess að allt væri nú sem raunverulegast þá var Magnús ber að ofan en eins og kunnugt er var Almar nakinn í glerkassa í vikutíma. Jóhanna, móðir Magnúsar, segir að drengurinn hafði viljað ganga aðeins lengra en hún hefði þó talið hann á það að vera í buxum á ferð sinni um bæinn í janúarkuldanum. Hann féllst á það en segir aðspurður að hann sé tilbúinn í að leggja mikið á sig til þess að búningurinn sé sem skemmtilegastur og flottastur. Búningurinn var þungur og súrefni af skornum skammti en vel þess virði þar sem hann vann í keppninni um besta búninginn. Magnús segist vera mikill keppnismaður þegar kemur að búningunum og leggur mikið á sig til þess að sigra. Magnús hefur gaman af því að fá fólk til að hlæja og þegar hann mætti í hús sem Texas Maggi núna í ár þá safnaðist heimilisfólkið oft saman og hló að frumlegum búning hans. „Ég væri alveg til að vera leikari eða eftirherma í framtíðinni,“ segir Grindvíkingurinn hressi að lokum.
Suðurnesjamagasín • fimmtudagskvöld kl. 20:00 • Hringbraut og vf.is
Fishershús gengur í gegnum endurnýjun lífdaga og verður ein glæsilegasta bygging Keflavíkur að loknu
framkvæmdum. Við skoðum húsið í þætti vikunnar og ræðum við Pál V. Bjarnason arkitekt um húsið.
Maggi litli Texas & MEKKA PÍLUNNAR Í GRINDAVÍK
Við hittum grindvísku útgáfuna af Magga á Texasborgurum. Þá er rætt við Pétur pílukastara Guðmundsson sem vinnur að útbreiðslu pílunnar og kennir pílukast sem val við Grunnskóla Grindavíkur.
n í s a g a m a j s e n r u ð u S á besta tíma!
Suðurnesjamagasín Sjónvarps Víkurfrétta hefur
fengið nýjan sýningartíma á fimmtudagskvöldum á Hringbraut. Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00. Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18. Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22. Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.
! n i m o k r e n Já, lóa
Örlítið brot af því besta úr Keflavíkurannálnum!
1
2.998 kr. kg Kjarnafæði Súrsuð eistu
Þorrinn
2.998 kr. stk.
ð r a g í r u g gen
1,3kg
2.298 kr. kg Kjarnafæði Lambasviðasulta Ný
Kjarnafæði Blandaður Súrmatur Í ekta skyrmysu, 1,3 kg
akk að h Blanad amb ut - 40% l 60% n
698 kr. 100 g
1.498 kr. 200 g Vestfirskur Harðfiskur Þorskur, 200 g
998 kr. kg
100%
Safi
2L
Blandað Hakk Naut/lamb, ferskt
Norðanfiskur Hákarl Frá Bjarnarhöfn, 100 g
rt i ÓDý aland
og sv
59
1L
kr. stk.
Faxe Kondi 330 ml
129
198 kr. 1 l
49
Klaki Kolsýrt vatn 2 lítrar, 3 tegundir
Floridana Heilsusafi 1 lítri
Faxe Kondi 330 ml
kr. 2 l
Verð gildir til og með 22. janúar eða meðan birgðir endast
kr. stk.
1kg
1kg
259
259
Barilla Fusilli 1 kg
Barilla Penne Rigate 1 kg
kr. kg
kr. kg
359 kr. kg
1,8 kg
Barilla Spaghetti 1,8 kg
ÍTALSKIR TÖFRAR Í BÓNUS 100kr verðlækkun
498
398 kr. 100 g
kr. 200 g
Ítölsk Þurrskinka 100 g
Grana Padano Ítalskur ostur, 200 g
598
698
kr. 200 g
kr. 500 ml
Parmigiano Ítalskur ostur, 200 g Verð áður 698 kr.
Sollu Jómfrúarolía 500 ml
í lausu
179 kr. 425 g
179 kr. 425 g
1.198 kr. 500 g
379
198
Sollu Maukaðir Tómatar Ítalskir, 425 g
Sollu Tómatpassata Ítalskir, 425 g
Bláber Chile, 500 g
Jarðarber Spánn, 250 g
Appelsínur Spánn, í lausu
kr. 250 g
kr. kg
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00
10
VÍKURFRÉTTIR
Söngvaskáld á Suðurnesjum
MÉR LEIDDIST AÐ SYNGJA Á FYLLIBÖLLUM
fimmtudagur 19. janúar 2017
Dagný Gísladóttir einn af skipuleggjendum Söngvaskálda á Suðurnesjum ásamt Ingibjörgu sem verður níræð á árinu.
Ingibjörg Þorbergs söngkona, tónskáld og tónlistarmaður
Fyrstu tónleikar tónleikaraðarinnar Söngvaskáld á Suðurnesjum verða tileinkaðir söngkonunni, tónlistarmanninum og tónskáldinu Ingibjörgu Þorbergs sem snemma varð þekkt söngkona og að auki kunn fyrir lög og ljóð barnalaga og jólalaga sem hafa lifað fram á þennan dag. Til gamans má geta að Ingibjörg verður níræð á árinu en hún er enn að semja lög og ber aldurinn vel. Við hittum þennan frumkvöðul á sviði barnatónlistar og plötuútgáfu einn eftirmiðdag þar sem hún var í hvíldarinnlögn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og var vel tekið á móti okkur. „Ég er mjög þakklát fyrir að fá að verða svona gömul,“ segir Ingibjörg brosandi með sinni fínlegu rödd. „Ég get ekki hlaupið og ekki dansað sem er svolítið leiðinlegt en göngugrindin bjargar mér svo ég komist um.“ Ingibjörg hefur samið fjölda laga og eru Aravísur og Hin fyrstu jól líklega þekktust og er óhætt að segja að hún sé eitt af stóru nöfnunum í íslenskri tónlistarsögu. Þá hefur hún átt þátt í að móta íslenskt útvarp með tilliti til barnaefnis og ekki hvað síst í að varða leið kvenna í íslenskri tónlist með framlagi sínu.
Það var engin sæld að keyra til Keflavíkur
Ingibjörg flutti til Keflavíkur á efri árum en hún hefur alla tíð haft sterka tengingu við bæinn. Þar býr frændfólk hennar sem og bróðirinn Skúli sem ílengdist eftir sumarvinnu á vellinum. Í Keflavík fann hann eiginkonu og nýlega fögnuðu þau 60 ára brúðkaupsaf-
mæli sínu. Það var því oft keyrt til Keflavíkur í heimsóknir. „Það var alltaf gaman að koma til Keflavíkur. Við fórum oft í heimsókn til Guðrúnar mágkonu minnar og þangað var gaman að koma í veislur því hún var flínk að baka og gera mat hvort sem það var á barnaafmælum eða jólum. Það vildi enginn missa af þeim veislum. Það var þó engin sæld að keyra til Keflavíkur, vegurinn var holóttur og oft þurfti að hvíla bílinn þegar komið var upp á Stapa. Stundum var ekið of geyst og þá þurfti að laga gamla skrjóðinn.“ Það var vel tekið á móti Ingibjörgu þegar hún fluttist til Keflavíkur ásamt eiginmanni sínum og píanóleikara Guðmundi Jónssyni og hrósar hún Keflvíkingum sérstaklega fyrir það hversu vel þeir halda við gömlu húsunum sínum. Menn vissu að það var komið tónskáld í bæinn og á síðasta ári fékk Ingibjörg heimsókn frá nemendum í Myllubakkaskóla sem fluttu fyrir hana Aravísur sem þau höfðu lært í skólanum. „Ég fór út á svalir eins og forsetinn og hlustaði á þau syngja og leika og þau gerðu það svo vel að hvert orð skildist,“ sagði Ingibjörg hrifin en þau eru ófá barnalögin sem liggja eftir hana.
Samdi sitt fyrsta lag níu ár gömul
Ingibjörg var syngjandi frá því að hún man eftir sér og fór að spila á orgel um leið og fæturnir náðu niður á petalana, aðeins níu ára gömul hafði hún samið sitt fyrsta lag. „Ég þóttist alltaf vera að búa til lög,“ segir Ingibjörg hlæjandi en hún náði lagi fljótt og oft var spilað eftir eyranu.
Ingibjör kom fram í útvarpi og sjónvarpi i Bandaríkjunum.
Ingibjörg lærði bæði á gítar, orgel og píanó en lagði síðan stund á klarinettuleik og varð fyrst íslenskra kvenna og í raun fyrsti Íslendingurinn til þess að ljúka einleikaraprófi á klarinett. Þá lærði hún jafnframt tónsmíðar og til tónmenntakennara. „Ég heillaðist svo af klarinettkonsertinum hans Mozart og ég ákvað að ég gæti ekki lifað án þess að spila hann. Það gerði ég, lauk náminu og spilaði konsertinn en ég tímdi ekki að hætta að syngja og á endanum varð söngurinn ofan á,“ segir Ingibjörg en hún var farin að syngja opinberlega um 1950, bæði með Smárakvartettnum og Marz bræðrum sem og hljómsveitum Carls Billich og Aage Lorange. Hún var með fyrstu dægurlagasöngvurum hérlendis en slíkur söngur á dansleikjum átti þó lítt við hana.
Leiddist að syngja á fylliböllum
„Ég var svo sveitaleg, var aldrei á börunum eins og allir sem vildu vera listamenn í Reykjavík. Ég fór aldrei neitt svoleiðis og mér leiddist að syngja á fylliböllum. Þess vegna var ég ekki mikið að syngja með danshljómsveitum og best fannst mér að syngja í templarahúsinu í Gúttó þar sem fólk var að hlusta.“ Þrátt fyrir að söngur á dansleikjum hugnaðist ekki Ingibjörgu þá lagði hún dægurlagasöng fyrir sig og átti eftir að syngja inn á fjölmargar hljómplötur. „Mamma var klassísk í sér og vildi helst ekki að ég væri í dægurlögum, hún sagði að það myndi eyðileggja fyrir mér. En mér fannst svo gaman að syngja í míkrafón,“ segir Ingibjörg og hlær.
Ingibjörg var aðeins nítján ára gömul þegar hún hóf störf hjá Ríkisútvarpinu en þar starfaði hún lengst af á tónlistardeildinni og annaðist meðal annars þáttagerð fyrir börn en það má segja að hún hafi átt stóran þátt í að móta útvarpsefni fyrir þann aldurshóp. „Ég var svo mikið með barnatímana og þar vantaði alltaf ljóð og lög. Þá varð maður bara að semja og ef okkur vantaði kór þá var það enginn vandi og þá var kannski hóað í krakkana hans Hjálmtýs, Diddú og systkini og þá var kominn kór,“ segir Ingibjörg kankvís en tekur þó fram að Páll Óskar hafi enn verið í vöggu og því ekki getað tekið þátt. „Tónlistin var tekin upp um leið og svo spiluð í þættinum.“ Það er óhætt að segja að Ingibjörg sé frumkvöðull á sviði tónlistar en auk þess að vera fyrsti Íslendingurinn til að ljúka einleiksprófi á klarinett þá var hún fyrsta konan til þess að syngja eigið lag og texta inn á hljómplötu. Lagið ‘Á morgun’ er eitt þeirra og það heillaði svo amerískan háskólakór
sem heimsótti Ísland að Ingibjörgu var boðið með til Bandaríkjanna og samdi hún enskan texta við lagið. „Ameríski söngstjórinn heyrði að ég ynni á útvarpinu og hefði samið þetta lag, Á morgun, sem var komið út á plötu. Hann spurði hvort ég gæti samið enskan texta sem úr varð og kórinn söng lagið sem hét þá Tomorrow. Ég var voðalega feimin, var látin standa upp en samt voru þarna engin lög eftir stóru tónskáldin okkar,“ segir Ingibjörg hæversk en í kjölfarið fylgdi tveggja mánaða ferð um Bandaríkin þar sem hún kom fram bæði í útvarpi og sjónvarpi og bauðst meðal annars plötusamningur hjá Capitol Records. Ingibjörg hafnaði hins vegar tilboðunum þar sem kominn var tími á heimför og vinnan á útvarpinu beið.
Aravísur, Jólakötturinn og fyrsta íslenska jólalagið
Framlag Ingibjargar til barnatónlistar er ótvírætt og eru Aravísur til að mynda eitt ástsælasta barnalag á Ís-
Ingibjörg var fyrst íslenskra kvenna til þess að ljúka einleikaraprófi á klarinett.
fimmtudagur 19. janúar 2017
11
VÍKURFRÉTTIR
ALVÖRU ÚTSALA Í MÚRBÚÐINNI!
Ríflegur afsláttur af MÚRBÚÐARVERÐI
– það er gott verð!
Öll Caster 3AFS0% Allar mottur 25% hj ól LÁTTUR AFS LÁT TU R r la eg dr og Patrol 30% verkfærakistur AFSLÁTTUR Wineo og Martinelli Vegg- og Öll Lu ol harðparket rafmagnsvTo g ólfflísar erkfæri
15SL-2ÁT0TU%R AF
2A FS5LÁ -3TT0%
15-50%
UR
25-LÁ4T0T% Eldhús UR stálvaskar A FS Ido, Ceravid og Imex WC
20-25% AFSLÁ TTUR
Ýmis verk- 25-40% færi og áhöld AFS LÁT TUR
yfir 40 vörunú mer
A FS LÁ TT U R
Asaki-Aimsak og Drive rafmagnsverkfæri
25-50%
30 vörunúmer
AF S L ÁT T UR
Hitastýrð blöndunartæki og sturtusett frá BOZZ
Öll strekkib önd
30% AFSLÁTTU R
25% AFSLÁTTUR
og ótal margt fleira! Kletthálsi 7, Reykjavík Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
VIÐBURÐIR NESVELLIR landi. Það var Tage Ammendrup sem starfaði með Ingibjörgu á útvarpinu sem fékk hana til þess að semja lagið og syngja vísur Stefáns Jónssonar inn á plötu árið 1954 en á þeim árum þekktist það varla að það kæmi eitthvað út sem eingöngu var ætlað börnum. Þá sló lagið hennar um Jólaköttinn í gegn. „Jólakötturinn gerði strax lukku en ég var löngu búin að semja lagið því mér fannst synd að ekki væri til lag við vísur Jóhannesar frá Kötlum. Ég held mikið upp á jólaköttinn, hann hefur ekki gert mér neitt illt. Enda ef börnin fengu einhverja flík fóru þau ekki í jólaköttinn og ég fór aldrei í jólaköttinn, maður fékk alltaf eitthvað til dæmis sokka eða klút um hálsinn.“ Ingibjörg samdi fyrsta íslenska jólalagið sem kom út á plötu og ekki var sálmur en það er lagið Hin fyrstu jól við ljóð Jóhannesar úr Kötlum. „Tage Aamendrup hringdi til mín og spurði hvort ég gæti ekki samið íslenskt jólalag ef hann fengi Kristján frá Djúpa-
læk til að semja texta. Honum fannst það vera alveg ótækt að við værum að syngja erlend lög eins og Oh My Darling Clementine á jólum. Mér þótti gaman að prófa það og ég var svo lukkuleg hvað þjóðin tók því vel. Þá var ég fegin þegar það kom ljósritunarvél því ég var alltaf að skrifa lagið upp, ég gat ekki neitað fólki um lagið því það var svo ánægt.“ Þess má geta að Ingibjörg samdi enskan texta við Hin fyrstu jól og grínaðist hún með það að líklegast hafi hún verið fyrst Íslendinga til þess að fara í poppútrás erlendis þegar lagið var við eitthvert tækifæri flutt á erlendri grundu.
Erfitt að vera kona í þessum bransa
Ingibjörg hefur verið fyrirmynd kvenna en á sama tíma hefur hún þurft að berjast fyrir sínu en til að mynda var henni hafnað þegar hún sótti um inngöngu í Tónskáldafélagið á sínum tíma. „Það hefur alltaf verið erfitt að vera kona í þessum bransa en það hefur lagast í seinni tíð.
Ingibjörg er enn að semja en eftir hana liggur á um þriðja hundruð laga og mikið af textum og ljóðum. „Ég er nýbúin að semja eitt lag sem var mjög erfitt því mig langaði í lag sem allir gætu lært auðveldlega og spilað á gítar. Það er þó erfitt að semja auðvelt lag. En ég get ekki skrifað neitt núna, er svo slæm af gigt og fæturnir halda mér í ströngu fangelsi. Ég er hætt að spila á gítarinn og píanóið og skrifa ekki lengur út eins og ég gerði og set bara hljómana við,“ segir Ingibjörg en ljóst er að framlag hennar til íslensks tónlistarlífs verður seint metið að verðleikum og er hún tvímælalaust eitt af stóru nöfnunum í íslenskri tónlistarsögu og sannkallaður vinur barnanna. Tónleikarnir um Ingibjörgu Þorbergs verða haldnir í Hljómahöll fimmtudaginn 2. febrúar nk. en þar verða m.a. flutt hennar þekktustu lög eins og Aravísur, Grýlukvæði, þrettándasöngur, Á morgun, Nú ertu þriggja ára, Litli vin og Hin fyrstu jól sem eru fyrir löngu orðin eign þjóðarinnar.
Ný lög um almannatryggingar verða kynnt á Nesvöllum föstudaginn 20. janúar kl. 14:00. Um kynningu sér Sólveig Hjartardóttir kynningarstjóri Samskiptasviðs Tryggingastofnunar. FORELDRAMORGUN Fyrsti Foreldramorguninn í Bókasafni Reykjanesbæjar á þessu ári verður fimmtudaginn 26. janúar kl. 11:00. Margrét Knútsdóttir jógakennari og ljósmóðir kemur með góðar og gagnlegar æfingar fyrir foreldra. VIÐTALSTÍMAR BÆJARSTJÓRA Viðtalstímar bæjarstjóra eru á miðvikudögum kl. 9-12. Panta þarf viðtal í gegnum vef Reykjanesbæjar á slóðinni www. reykjanesbaer.is/is/stjornsysla/baejarstjorn/panta-vidtal-vidbaejarstjora
LAUS STÖRF HÆFINGARSTÖÐ STJÓRNSÝSLUSVIÐ LEIKSKÓLINN HJALLATÚN FRÆÐSLUSVIÐ BARNAVERND
Forstöðumaður Skjalavörður Deildarstjóri Sálfræðingur Stuðningsfjölskyldur
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf eða beint á Ráðningavefinn https://reykjanesbaer.hcm.is/ storf/. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði. Ingibjörg stjórnaði barnatíma útvarpsins og hér er hún ásamt bróðursyni sínum Skúla Skúlasyni, formanni Kaupfélags Suðurnesja.
12
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 19. janúar 2017
„Við fórum til Los Angeles og unnum þar í mánuð hjá NBC að gerð þáttarins.“
ATVINNA Starfsmaður óskast í þjónustumiðstöð
Grindavíkurbær óskar eftir að ráða starfsmann í þjónustumiðstöð bæjarins. Leitað er að metnaðarfullum og traustum einstaklingi, sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum. Um 100% starf er að ræða, 50% í umsjón með vinnuskóla og 50% störf í þjónustumiðstöð. Verksvið og ábyrgð • Flokkstjóri yfir sláttudeild/málingarflokki yfir sumartímann - 50% • Minniháttar viðhaldi á smávélum. • Minniháttar viðhald á bílum þjónustumiðstöðvar. t.d. olíuskipti o.fl. • Minniháttar viðhald á vatns- og fráveitu. • Ýmis viðhaldsvinna innan stofnana bæjarins. • Önnur tilfallandi störf í þjónustumiðstöð, m.a. afleysingar á þjónustubifreið, viðhald á opnum svæðum, snjómokstur o.fl. Hæfniskröfur • Starfsreynsla frá sambærilegum verkefnum sem nýst getur í starfi. • Þekking og reynsla af því að vinna með vélar og að viðhalda þeim. • Góð almenn tölvukunnátta. • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Bílpróf og vinnuvélaréttindi (skylda) • Meirapróf/fólksflutninga 10 farþega eða gamla ökuskírteinið - ökuskírteini sem voru í gildi 1. mars 1988 (skylda) • Rík þjónustulund við íbúa bæjarins. • Lipurð í mannlegum samskiptum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja. Umsækjandi þarf að vera með hreint sakavottorð og skila því inn sé þess óskað. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið. Umsóknareyðublöð fyrir starfið má nálgast á heimasíðu Grindavíkurbæjar Senda skal umsóknir til Sigmars B. Árnasonar byggingafulltrúa á bygg@grindavik.is, skila í afgreiðslu Grindavíkurbæjar Víkurbraut 62, eða senda á póstfangið: Grindavíkurbær „Starfsmaður í þjónustumiðstöð” Víkurbraut 62 240 Grindavík Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar nk. Nánari upplýsingar veitir byggingafulltrúi í síma 420 1109
Suðurnesjamagasín Sjónvarps Víkurfrétta hefur fengið nýjan sýningartíma á fimmtudagskvöldum á Hringbraut. Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00. Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18. Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22. Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.
Sölvi Logason segir hugbúnaðargeirann mjög frjóan og að þróunin þar sé hröð.
„ÞVÍ FLÓKNARA, ÞVÍ SKEMMTILEGRA“
„Við sjáum um alla hugbúnaðarþróun hjá fyrirtækinu. Við erum teymi innan „WOW Labs“ og sjáum um vefsíðuna og appið okkar,“ segir Sölvi Logason, aðspurður hvaða felist í því að vera forritari hjá fyrirtæki eins og WOW air. „Okkar hlutverk gengur líka svolítið út á að gera líf farþegans auðveldara. Í flugbransanum er tiltölulega auðvelt fyrir okkur að vita hvernig er að vera notandinn því maður hefur ferðast oft sjálfur. Maður veit hvernig það getur verið að vakna um miðja nótt, drífa sig út á flugvöll til þess að standa í einhverri röð og svo framvegis. Það eru ýmsir hlutir sem gætu gengið auðveldar fyrir sig og við reynum að finna lausnir til að auðvelda flugfarþegum lífið.“ Sölvi er með BSc gráðu í hugbúnaðarverkfræði og er tiltölulega nýbyrjaður hjá WOW air. Áður starfaði hann hjá sprotafyrirtækinu Plain Vanilla sem skaust fram á sjónarsviðið á ógnarhraða fyrir nokkrum árum með QuizUp spurningaleik sínum fyrir snjallsíma. Leiknum, eða appinu, var halað niður 80 milljón sinnum og er nú einnig komið á kínverskan markað. „Mér fannst þetta vera spennandi vettvangur eftir að QuizUp ævintýrinu lauk. Þetta er nýlegt fyrirtæki og spennandi uppbygging í gangi hér.“
Plain Vanilla hafði samband
Sölvi bjó til vefsíðu á sínum tíma sem heitir flytime.is þar sem hægt er að fylgjast með flugum í rauntíma og fá tölvupóst sendan um tiltekið flug,
ATVINNA
Okkar vantar þjónustulundaðan og skemmtilegan starfsmann í mötuneyti okkar í Keili á Ásbrú, Ef þig langar að vinna við afgreiðslu og matargerð þá endilega hafðu samband við okkur menu4u@menu4u.is eða í síma 4214797 Hæfniskröfur: Tala og skrifa íslensku, hafa ríka þjónustulund, sjálfstæð vinnubrögð og reynsla við meðhöndlun matvæla.
Grænásbraut 619 // 235 Reykjanesbæ // 421 4797
þegar vélin er farin í loftið, þegar hún lendir og þess háttar. Vefsíðan var tilnefnd til íslensku vefverðlaunanna sem besta „non-profit“ vefsíðan árið 2015. Hún vakti athygli starfsmanna Plain Vanilla sem höfðu í kjölfarið samband við Sölva. Stuttu seinna var hann ráðinn til fyrirtækisins.
Hann vann að uppbyggingu vefsíðu fyrirtækisins og svo að undirbúningi sjónvarpsþáttar í tengslum við leikinn. Hann átti að vera sýndur á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC. „Við fórum til Los Angeles og unnum þar í mánuð hjá NBC að gerð þáttarins. Það voru ýmsar tæknilegar fyrirstöður sem þurfti að leysa úr enda átti þátturinn að vera gagnvirkur, þ.e. áhorfendur áttu að geta tekið þátt í leiknum heima í stofu í gegnum snjallsímann sinn. Þetta var svakalega skemmtilegur tími og frábær skóli,“ segir Sölvi en NBC hætti við að gera þáttinn og þurfti Plain Vanilla að segja upp starfsmönnum sínum á Íslandi. „Það var alveg ótrúlegt að fá svona starf strax eftir útskrift. Þetta var mjög þéttur og skemmtilegur hópur og ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið að taka þátt í þessu.“
Stofnaði fyrirtæki 19 ára
Nítján ára stofnaði Sölvi fyrirtækið Optimus margmiðlun ásamt Sindra vini sínum. „Við félagarnir höfðum verið að vinna saman í nemendafélaginu að sjónvarpsþættinum Hnísunni, gerð tímaritsins Vizkustykki og aug-
lýsingagerð fyrir böll og þess háttar. Þarna lærði maður á Photoshop og fljótlega var fólk farið að biðja okkur um að búa til nafnspjöld eða auglýsingar fyrir sig. Þá datt okkur í hug að stofna bara fyrirtæki sem tæki að sér slíka hönnun. Fyrsta sumarið vorum við að þessu með annarri vinnu til að vera með öruggar tekjur. En sumarið eftir það höfðum við það mikið að gera að við vorum með þetta sem aðalstarf.“ Fyrirtækið er núna með litla starfsemi þar sem Sölvi og Sindri fengu báðir vinnu hjá stærri fyrirtækjum. „Núna tökum við að okkur eitt og eitt verkefni sem okkur þykja spennandi,“ segir Sölvi.
Sprotafyrirtæki draumurinn
Aðspurður hvað það sé við forritun sem heillar hann svarar Sölvi að hann hafi gaman að því að vera skapandi. „Maður er að skapa og smíða eitthvað nýtt sem leysir vandamál. Þegar verkefnin eru krefjandi og flókin er þetta enn skemmtilegra. Hlutirnir gerast hratt og svo er tilkostnaðurinn lítill, ef þú berð þetta saman við til dæmis bílaframleiðslu. Efniskostnaður er mikill við framleiðslu á vélbúnaði en ekki hugbúnaði.“ Draumastarfið segir hann vera að stofna sitt eigið sprotafyrirtæki einn daginn. „Núna eru nokkrir fyrrverandi samstarfsfélagar hjá QuizUp búnir að stofna slík fyrirtæki. Kannski tekur maður þátt í einhverjum þeirra eða stofnar sitt eigið. Það er draumurinn.“
Móta umhverf- Próflaus isstefnu fyrir með börn sín Grindavíkurbæ í bílnum ■■Umhverfis- og ferðamálanefnd Grindavíkur hefur tekið saman drög að umhverfisstefnu fyrir bæjarfélagið. Í fundargerð bæjarráðs kemur fram að hugmyndin sé sú að hér sé komið nokkurs konar leiðarljós sem hægt verður að nýta við smíði á stærri og heildstæðari stefnu eins og sum önnur sveitarfélög hafa sett sér. Nefndin óskaði eftir umsögn bæjarráðs og hefur það lýst yfir ánægju sinni með tillögu nefndarinnar og samþykkir að haldið verði áfram með hugmyndavinnuna.
■■Ökumaður, sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af á dögunum, reyndist hafa verið sviptur ökuréttindum. Hann var að auki með tvo syni sína í bílnum. Barnaverndarnefnd var tilkynnt um atvikið. vÞá voru nokkrir ökumenn staðnir að hraðakstri. Sá sem hraðast ók mældist á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Eitthvað var um umferðaróhöpp um síðustu helgi en þau voru minni háttar og engin alvarleg slys urðu á fólki.
fimmtudagur 19. janúar 2017
GamlaBud - myndatexti: Brátt fer vinnu við ytra byrði Gömlu búðar að ljúka. VF-mynd/hilmarbragi.
Upplýsingamiðstöð ferðamála líklega í Gömlu búð Gert er ráð fyrir að Menningarskrifstofa Reykjanesbæjar og Upplýsingamiðstöð ferðamála verði fluttar í Gömlu búð næsta sumar, samkvæmt fundargerð Menningarráðs Reykjanesbæjar frá 12. janúar síðastliðnum. Á fundinum fór sviðsstjóri yfir stöðu framkvæmda við Gömlu búð og Fisc-
13
VÍKURFRÉTTIR
hershús og upplýsti að vinnu við ytra byrði beggja húsanna færi nú brátt að ljúka og þá yrði gert hlé á framkvæmdum í Fischershúsi í bili en farið í endurgerð innanhúss í Gömlu búð. Ráðið ræddi ýmsar hugmyndir um nýtingu Fischershúss þegar framkvæmdum þar yrði lokið.
Hlutkesti um lóðir við Trönudal ■■Tveir aðilar, HUG-verktakar og P. Bateman ehf., sóttu um lóðir við Trönudal 1 til 15 í Reykjanesbæ. Í fundargerð Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar frá 10. janúar síðastliðnum segir að sviðsstjóra sé falið að sjá um hlutkestið og bjóða umsóknaraðilum að vera viðstaddir. Greint verður frá niðurstöðum á næsta fundi nefndarinnar. Báðir aðilar sóttu um að byggja keðjuhús á tveimur hæðum við Trönudal.
■■Fræðslusvið Reykjanesbæjar mun á næstu mánuðum standa fyrir nokkrum foreldrafærninámskeiðum. Námskeiðin eiga það sameiginlegt að vera byggð á jákvæðum og árangursríkum uppeldisaðferðum og hafa það markmið að styrkja foreldra í hlutverki sínu. „Foreldrar eru hvattir til þess að nýta þetta frábæra tækifæri til að styrkja sig í foreldrahlutverkinu, samræma uppeldisaðferðir sínar og hitta aðra foreldra í sambærilegri stöðu,“ segir í tilkynningu frá fræðslusviði Reykjanesbæjar. Þrjú námskeið verða í boði en það eru Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar (2-6 ára), Klókir litlir krakkar (3-8 ára) og Uppeldi barna með ADHD (5-12 ára). Á vefsíðu Reykjanesbæjar má finna frekari upplýsingar um hvert námskeið og skráningu.
■■Framkvæmdir eru hafnar við fyrsta áfanga nýs bílastæðis við Reykjanesvita en þar er fyrirhugað að rísi þjónustumiðstöð sem verði tilbúin í byrjun næsta sumars. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdum við bílastæði ljúki innan þriggja vikna. Vegfarendur eru hvattir til að taka tillit til framkvæmdanna á meðan þeim stendur.
Okkur vantar blikksmið, járniðnaðarmann eða mann með reynslu til starfa sem fyrst. Upplýsingar í síma 861-0592.
BLIKKSMIÐJA DAVÍÐS AÐALFUNDUR MÁNA Framhaldsaðalfundur Hestamannafélagsins Mána verður haldinn þriðjudaginn 7. febrúar 2017 kl. 20:00 í Reiðhöll Mána. Dagskrá: 1. Reikningar 2016 2. Ræktunarverðlaun 3. Önnur mál Stjórn Mána
PIPAR\TBWA-SÍA
Foreldrafærninámskeið í Reykjanesbæ
Bílastæði á Reykjanesi tilbúin á næstu vikum
ATVINNA
Fasteignir til sölu á Ásbrú Á innan við áratug hefur byggst upp á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll, þróttmikið og litríkt samfélag með öfluga menntastofnun, fjölda spennandi fyrirtækja, gróskumikla nýsköpun og blómstrandi mannlíf. Hröð uppbygging í gagnaveraiðnaði og örþörungarækt, ásamt nálægð við Keflavíkurflugvöll gera Ásbrú að sönnu vaxtarsvæði til framtíðar.
BOGATRÖÐ 1
BOGATRÖÐ 2
BOGATRÖÐ 17
SUÐURBRAUT 890
VALHALLARBRAUT 891
Stærð: 1.501 m2 Tegund: Atvinnuhúsnæði
Stærð: 648,5 m2 Tegund: Atvinnuhúsnæði
Stærð: 370 m2 Tegund: Atvinnuhúsnæði
Stærð: 2.385 m2 Tegund: Skrifstofur/Vöruhús
Stærð: 400 m2 Tegund: Atvinnuhúsnæði
Íslenska ríkið er eigandi þeirra fasteigna sem auglýstar eru. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, sem fer með umsjón og þróun svæðisins, óskar eftir tilboðum í þær. Við mat á tilboðum verður einkum horft til kaupverðs. Þó er áskilinn réttur til að meta hugmyndir bjóðenda um nýtingu og ráðstöfun eignanna, s.s. áhrif á eftirspurn eftir öðrum eignum á svæðinu og almennt á nærsamfélagið. Ekki er um útboð á eignunum að ræða heldur sölu. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar áskilur sér rétt til að taka því tilboði sem það telur hagstæðast, m.a. út frá ofangreindum þáttum, eða hafna þeim öllum. Þú getur skoðað eignirnar nánar á kadeco.is
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.kadeco.is
14
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 19. janúar 2017
ÞORRABLÓT KEFLAVÍKUR
■■Það var mikið fjör á þorrablóti Keflavíkur í Íþróttahúsi Keflavíkur sl. laugardag. Hér má sjá myndir af nokkrum hressum gestum sem voru á sjöunda hrundraðið.
Vínbúðin Reykjanesbæ
Aðstoðarverslunarstjóri Vínbúðirnar óska eeir að ráða aðstoðarverslunarstjóra í Vínbúðina Reykjanesbæ Helstu verkefni og ábyrgð • Þjónusta við viðskiptavini • Sala, birgðahald og umhirða búðar • Framsslling á vöru og vörumeðhöndlun • EEirfylgni þjónustu- og gæðastefnu fyrirtækisins • Verkstjórn í arveru verslunarstjóra Hæfniskröfur • Reynsla af verslunarstörfum • Reynsla af verkstjórn • Frumkvæði og metnaður í starfi • Góð framkoma, jákvæðni og rík þjónustulund • Hæfni í mannlegum samskiptum • Almenn tölvukunnááa er nauðsynleg og þekking á Navision kostur
Gildi Vínbúðanna eru LIPURÐ - ÞEKKING - ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu munu taka mið af þessum gildum
Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is Umsóknarfrestur er l og með 6.2.2017 og þarf viðkomandi að geta haa störf sem fyrst. Starfshluuall er 100% Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri. Nánari upplýsingar veita Rannveig Ævarsdóór (reykjanesbaer@vinbudin.is / 421 5699) og Guðrún Símonardóór (gudrun@vinbudin.is / 560 7700)
ÁTVR rekur 50 Vínbúðir um allt land. Stefna ÁTVR er að vera eii af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi og skemmmlegur þar sem samskipp einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.
fimmtudagur 19. janúar 2017
15
VÍKURFRÉTTIR
Rafmagnaðar raddir SUÐURNESJAMANNA
Suðurnesjamennirnir söngelsku þeir Tómas Guðmundsson og Arnar Dór Hannesson eru komnir í 12 manna úrslit í sjónvarpsþáttunum The Voice Ísland. Næstu þrjú föstudagskvöld verða úrslitaþættirnir sýndir í beinni útsendingu í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Svo skemmtilega vill til að báðir eru Tómas og Arnar Dór rafvirkjameistarar.
Dramadrottning í sér Tómas Guðmundsson er rafvikjameistari og einn eigenda TG-raf í Grindavík og segir þátttökuna í Voice töluvert frábrugðna rafvirkjavinnunni. Hann kveðst þó aldrei syngja í vinnunni. „Ég er rosalega feiminn við að syngja fyrir fólkið í kringum mig og finnst minna mál að syngja á viðburðum,“ segir hann. Keppendur í The Voice Ísland eru í liði dómara keppninnar og er Tómas í liði Svölu Björgvins. Ragga Gísla er aðstoðarþjálfarinn og segir Tómas samstarfið við þær hafa verið mjög lærdómsríkt. Í gegnum tíðina hefur Tómas glamrað á gítar og sungið með sjálfum sér. „Svo var konan mín orðin leið á að hlusta á þetta mjálm í mér fyrir fjórum árum og gaf mér söngnámskeið í jólagjöf.“ Námskeiðið var hópnámskeið og ein í hópnum bauð Tómasi í prufu í kór. Þá vaknaði áhuginn á söngnum fyrir alvöru og hann sótti fleiri söngnámskeið. Á svipuðum tíma byrjaði hann í grindvísku hljómsveitinni Brimróðri. Þegar Tómas var búinn að læra söng
í þrjá mánuði kom hann fram með hljómsveitinni á Menningarvikunni í Grindavík og kveðst hafa verið að leka niður af stressi. Hljómsveitin sigraði svo í Maggalaga-keppni Rásar 2 árið 2015 með útgáfu sinni af laginu Þorparinn. „Upphaflega ætlaði ég að spila á gítar í hljómsveitinni en þá kom í ljós að ég var ekkert rosalega góður í því. Þá fékk ég að prufa að syngja og tók svo sönginn að mér.“ Róleg tónlist höfðar betur til Tómasar, lög sem tjá tilfinningar. „Maður er hálfgerð dramadrottning í sér svo ég tengi mest við dramalögin,“ segir hann. Tómas segir sönginn gefa mikla tilfinningalega útrás. „Í söngnum nær maður að losa um eitthvað sem hvergi annars staðar er hægt, hvorki í ræktinni né annars staðar. Þegar maður finnur að fólk er að tengja við tónlistina, þá gerist eitthvað í loftinu og mér finnst það alveg æðislegt,“ segir hann aðspurður um það hvað söngurinn gefi honum.
„Í söngnum nær maður að losa um eitthvað sem hvergi annars staðar er hægt„“
Tómas er einn þriggja eigenda TG-raf í Grindavík en syngur aldrei í vinnunni. Eftir að eiginkona hans gaf honum söngnámskeið í jólagjöf vaknaði áhugi á söng fyrir alvöru hjá Tómasi. Hann er nú kominn í 12 manna úrslit í The Voice Ísland þar sem almenningur kýs þá sem komast áfram.
Gæti ekki lifað án tónlistarinnar Arnar Dór Hannesson ólst upp í Keflavík en hefur búið í Hafnarfirði undanfarin ár. Hann er rafvirkjameistari og deildarstjóri yfir rafmagnssviði hjá hafnfirska fyrirtækinu VHE. Arnar lærði söng í FÍH og hefur einnig sótt námskeið í Complete Vocal Technique. „Ég fór að rækta sönghæfileikana upp úr tvítugu en mamma segir að ég hafi alltaf verið syngjandi sem barn og þá sérstaklega gömul íslensk dægurlög sem þótti mjög sérstakt en ég er mjög stoltur af því í dag.“ Arnar Dór er alltaf að vinna eitthvað við tónlist, eins og hann orðar það, og kemur reglulega fram í brúðkaupum, jarðarförum, árshátíðum og ýmsum verkefnum, bæði sem sólóisti eða með hljómsveitinni sinni eða gospelkór. Arnar er í liði Helga Björns í þáttunum. „Hann er mikill reynslubolti í þessu fagi og ég reyni að læra og taka eins mikinn fróðleik frá honum og ég get. Hann leggur sig líka allan í þetta
Arnar er alæta á tónlist en þykir mest gefandi að syngja gospel, sálartónlist og fallegar ballöður. Hann er, líkt og Tómas, kominn í 12 manna úrslit í The Voice Ísland. Þátturinn verður sýndur í beinni útsendingu og geta áhorfendur heima í stofu kosið sinn uppáhalds söngvara.
og gefur manni þann tíma sem maður þarf. Hjá honum hef ég fengið ótrúlega góða punkta sem hafa gert mig að betri listamanni.“ Arnar er alæta á tónlist en þykir skemmtilegast og mest gefandi að syngja gospel, sálartónlist og fallegar ballöður með innihaldsríkum texta. „Það sem gefur mér mest við tónlistina og sönginn er að geta gefið sem mest af mér og ef að fólki líkar þá er það frábær tilfinning. Ég gæti í raun ekki verið án tónlistarinnar.“ Söngurinn er ástríða Arnars og segir hann ómetanlegt og ótrúlega gaman að fá að vera með í Voice. „Þessi vegferð í keppninni hefur verið eintóm hamingja og gleði. Það er svo gefandi og þroskandi að kynnast því fólki sem kemur að þessu verkefni. Sama hvort það eru hinir keppendurnir, þjálfararnir eða þeir sem vinna á bak við tjöldin.“
„Þessi vegferð í keppninni hefur verið eintóm hamingja og gleði“
16
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 19. janúar 2017
VETRARDEKK
unnin úr kísil ●●Aníta Hauksdóttir rannsakaði nýtingarmöguleika á kísil sem felldur er úr jarðhitavökva á Reykjanesi „Já, ég tel þetta vera vannýtta náttúruafurð. Rannsóknin mín var á hráum, óunnum kísil en svo eru enn meiri möguleikar þegar búið er að vinna hann,“ segir Aníta Hauksdóttir, orkuverkfræðingur, aðspurð hvort hún telji kísil úr jarðhitavökva vera vannýtta náttúruafurð. Meistaraverkefni Anítu í orkuverkfræði við Háskólann í Reykjavík fjallaði um nýtingamöguleika hans, það er kísils sem felldur hefur verið úr jarðhitavökvanum á Reykjanesi. Niðurstöðurnar voru á þann veg að Aníta fann þrjár tegundir iðnaðar sem gætu mögulega nýtt þessa tegund kísils og var einn þeirra framleiðsla á vetrardekkjum. Þó þyrfti að gera frumprófanir og tilraunir með kísilinn og skoða
frammistöðu hans í þessum tilteknu tegundum af iðnaði. Niðurstöður sýndu að yfirborðsflatarmál kísilsins sem Aníta rannsakaði er mjög lágt, en það sem gerir kísil verðmætan er hátt yfirborðsflatarmál. „Það er þó hægt að breyta því með því að breyta ýmist sýrustiginu, hitastiginu eða einhverju álíka í útfellingakerfinu. Ég ráðlagði HS orku að kanna hverjar stýribreyturnar eru svo hægt sé að hækka yfirborðsflatarmálið.“
Heillaðist af auðlindagarðinum
Í grennd við jarðvarmaver HS Orku á Suðurnesjum er starfræktur svokallaður Auðlindagarður þar sem lögð er áhersla á að nýta auðlindastrauma frá jarðvarmaverunum. Fyrirtæki Auð-
lindagarðsins nýta með beinum hætti tvo eða fleiri auðlindastrauma frá jarðvarmaverum HS Orku og verða því að vera staðsett á Suðurnesjum í grennd við jarðvarmaverin. Þannig er affall eins fyrirtækis hráefni fyrir annað og verður þannig til þverfaglegt samstarf. Aníta heillaðist af fyrirkomulaginu og hafði í huga að gera meistaraverkefni sitt um eitthvað tengt þessu. „Ég falaðist eftir því hvort það væru einhver verkefni þessu tengd, og þá helst jarðvarmanum. Kristín Vala Matthíasdóttir, aðstoðarleiðbeinandinn minn, sem er framkvæmdastjóri Auðlindagarðsins, kom þá með þessa hugmynd að rannsaka nýtingamöguleika kísilsis sem felldur er úr jarðhitavökvanum,
þar sem markmið garðsins er að nýta allar auðlindir“
Tók heilbrigðisverkfræði fyrst
Aníta er nú komin í starf hjá fyrirtækinu Gerosion þar sem hún vinnur að svipuðum rannsóknum og hún gerði við meistaraverkefni sitt. „Þar erum við að rannsaka útfellingarmöguleika á öllum jarðvarmaverum landsins.“ Aðspurð hvaðan áhuginn á orkuverkfræði kviknaði segist Aníta hafa byrjað á að taka BSc í heilbrigðisverkfræði en fundið að þar lægi áhugi hennar ekki. „Ég fór að skoða hvað væri í boði á Íslandi, ég er ein með dóttur mína og var því ekki að skoða nám erlendis. Valið hjá mér stóð á milli vélaverkfræði og orkuverkfræði en mér fannst
mjög spennandi áfangar í boði í hvoru tveggja. Ég er mjög ánægð að hafa valið þetta nám, mér finnst þetta mjög áhugavert og skemmtilegt.“ Spurð um draumastarfið segir hún það vissulega draumastöðu að fá starf sem er í raun beint framhald af verkefninu hennar. Annars er það að komast að hjá HS orku. „Þar eru nýsköpun og alls kyns rannsóknarverkefni í gangi og ég er mjög áhugasöm um það,“ segir Aníta.
„Valið hjá mér stóð á milli vélaverkfræði og orkuverkfræði“
OPIÐ Á FÖSTUDAGS- OG LAUGARDAGSKVÖLD Á
BÓNDADAGSHELGI 20. og 21. jan. kl. 18.-21. Ekki hægt að taka frá borð. Bara mæta!
20. OG 21. JANÚAR KL. 18:00 - 21:00.
Hrannargata 6 (áður Raggi bakari) Sími: 421 7646
fimmtudagur 19. janúar 2017
17
VÍKURFRÉTTIR
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Karlotta Sigurbjörnsdóttir, Háholti 11, Keflavík,
lést á Hrafnistu Nesvöllum, laugardaginn 7. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 20. Janúar kl:13:00. Margrét Hallsdóttir, Sigurbjörn Júlíus Hallsson, Hallur Metúsalem Hallsson, Ragnar Kristbjörn Hallsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Níels Carsten Bluhme, Stefanía Hákonardóttir, Margaríta Hallsson, Inga Lóa Steinarsdóttir,
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Morgunverður Thelmu ■■„Þetta græna boozt geri ég mjög oft fyrir okkur mæðgurnar,“ segir Thelma Rúnarsdóttir, en hún gefur okkur hér uppskrift af sínu uppáhalds boozti ásamt hugmynd að morgunverðarskál og millimáli. Thelma býr með unnusta sínum og tveimur börnum þeirra í Reykjanesbæ og starfar í vopnaleitinni hjá Isavia. Hún hefur mikinn áhuga á hreyfingu og notast við lyftingarprógrammið Alpha Girls. „Ég reyni að fara fjórum til sex sinnum í viku í ræktina. Þetta er mjög krefjandi prógramm en líka mjög skemmtilegt,“ segir Thelma. Aðspurð hvort hún hafi sett sér áramótaheit segist hún vanalega ekki setja sér ströng áramótaheit en ætlar þó að reyna að vera skipulagðari heima fyrir, huga enn betur að mataræðinu og fara meira út fyrir þægindarammann í ár.
Morgunverðarskál með múslí
„Í morgunmat fæ ég mér mjög oft gríska jógúrt í bland við lífræna kókosjógúrt með múslí. Mér finnst lífræna kókos múslíið frá CrispyFood b e s t . Einnig þykir mér gott að setja eina matskeið af chia fræjum og tvær matskeiðar af höfrum út á Lífrænt lífræna kókoskókosmúslí jógúrt. Gott er að í blöndu af grískri og setja fersk ber út á, eins og bláber eða kókosjógúrt. jarðarber. Þetta tvennt er í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana.“
Grænt boozt
1 bolli frosið mangó 1 bolli frosinn ananas Ein lúka af fersku spínati 3-4 myntulauf ¼ límóna Kókosmjólk eða kókosvatn.
Ef ég nota kókosvatn þá bæti ég oft grískri jógúrt eða lárperu við til að þykkja booztið. Kókosmj ól k i n e r frekar hiteiningahá, svo þetta er kannski enginn megrunardr ykkur, en góður er hann! Kristel, dóttir mín sem er tveggja og hálfs árs er ekki mjög mikið fyrir Græna booztið g r æ n m e t i vekur lukku hjá e n h e n n i Kristel, dóttur finnst Thelmu þetta boozt mjög gott, svo það er góð leið fyrir mig til að fá hana til að borða grænmeti og ávexti.
Gott er að setja hnetusmjör á þessar einföldu og hollu bananapönnsur
Sjúkrarúmm til sölu, það er tvíbreytt og með nuddi öðrumeginn. Upplýsingar í síma 899 6539.
Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Guðrún H. Rúnarsdóttir, Júlíus M. Steinþórsson,
Ástkær dóttir okkar, systir, barnabarn og frænka,
Alma Þöll Ólafsdóttir, Mánagötu 25, Grindavík,
lést af slysförum, fimmtudaginn 12. janúar. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju, föstudaginn 20. janúar kl. 14:00. Ólafur Már Guðmundsson, Hulda Björk Ólafsdóttir, Guðmunda Ösp Ólafsdóttir, Guðmundur Sverrir Ólafsson, Ægir Sigurðsson, og aðrir aðstandendur.
Lóa Mjöll Ægisdóttir, Guðmunda Jónsdóttir, Alma Vestmann,
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför míns besta vinar og ástkærs eiginmanns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Kirkjuvegi 1, Reykjanesbæ,
Sérstakar þakkir fær starfsfólk D-deildar og heimahjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þórunn Axelsdóttir, Magnús Rúnar Jónasson, Þórarinn Sveinn Jónasson, Jónas Þór Jónasson, Sveinn Ólafur Jónasson, barnabörn og barnabarnabörn.
Ágústa Ásgeirsdóttir, Rut Jónsdóttir, Særún Ása Rúnarsdóttir, Herborg Hjálmarsdóttir,
Verið velkomin
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
www.vf.is Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
Eyrún Jónsdóttir, Ingigerður Stefánsdóttir, Stefán Stefánsson, Fjóla Ósk Stefánsdóttir, barnabörn og langafabarn.
Jónasar Þórarinssonar,
2 egg 1 banani
Til sölu
lést á Landspítalanum v/Hringbraut, fimmtudaginn 12. janúar. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju, laugardaginn 21. janúar kl.13:00.
Jónas texti
Bananapönnsur
SMÁAUGLÝSINGAR SUNNUDAGUR 22. JANÚAR KL. 11:00 Messa þar sem Rótarý- og Faxafélagar fjölmenna. Á sama tíma er sunnudagaskóli í umsjón Systu, Unnar og Helgu. Súpa og brauð lagt á borð af fermingarforeldrum og súpuþjónum. Kórfélagar syngja undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR KL.12:00 Kyrrðarstund í kapellu vonarinnar í umsjón presta og organista. Gæðakonur matreiða súpu og brauð. FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR KL. 16:00 Fermingarfræðsla í Keflavíkurkirkju fyrir stráka og stelpur. Arnór organisti leiðir þau í söng. Erla og Eva Björk annast fræðslu.
2 msk hafrar Í millimál fæ ég mér mjög oft skyr, egg, One bar próteinstykki eða bananapönnsur. Ég hræri saman tveimur eggjum, einum banana og tveimur matskeiðum af höfrum og steiki á pönnu. Það tekur enga stund og er mjög gott. Mér finnst gott að setja jarðarber, banana, hnetusmjör eða smá smjör ofan á.
Stefán Stefánsson,
Vesturhópi 20, Grindavík,
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Kristján Geir Pétursson, Njarðarvöllum 6, Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, fimmtudaginn 14. desember 2016. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegt þakklæti til starfsfólks D-deildar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Dagdvöl aldraðra á Nesvöllum fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Guð blessi ykkur öll. Pétur Fr. Kristjánsson, Karitas B. Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Kristinn Eyjólfsson,
18
VÍKURFRÉTTIR
FAGLEG, TRAUST OG PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
fimmtudagur 19. janúar 2017
ÍÞRÓTTIR
Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is
VIÐ BJÓÐUM MEDISMART RUBY BLÓÐSYKURMÆLA, STRIMLA, BLÓÐHNÍFA OG NÁLAR FRÍTT FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ SKÍRTEINI FRÁ TR. MJÖG EINFALDUR Í NOTKUN, STÓR SKJÁR, LÉTTUR OG HANDHÆGUR - „No coding“ þarf ekki að núllstilla - Þarf mjög lítið magn til mælinga, aðeins 0,6µl - Mælir blóðsykur á bilinu 1.1 - 35 mmol/L - Mæling tekur aðeins 5 sek. - Geymir 480 mælingar í minni - Hægt að tengja við tölvu Apótek Suðurnesja leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarksverði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.
Hringbraut 99 - 577 1150
Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.
Feðgarnir Alex Máni og Pétur Rúðrik eru duglegir að æfa. Strákurinn er orðinn sérstaklega sleipur í stærðfræði og reiknar skorið um leið í huganum.
Ber út boðskap pílukasts PRÓFDÓMARI Í ÖKUPÓFUM Á REYKJANESI Við leitum að starfskrafti sem hefur góða þjónustulund, er áreiðanlegur, getur starfað sjálfstætt og er tilbúinn að bæta þekkingu sína og hæfni til þess að takast á við krefjandi starf hjá traustu fyrirtæki Starfið: • Annast bæði verkleg og bókleg ökupróf • Samskipti við viðskiptavini • Skráningar í tölvu Hæfniskröfur: • A.m.k. fjögurra ára nám að loknum grunnskóla og hlotið menntun með áherslu á kennslu- og uppeldisfræði • Æskilegt að umsækjandi hafi öll ökuréttindi sem og ökukennaramenntun • Hæfni í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund Í boði er: • Áhugavert og krefjandi starf hjá traustu fyrirtæki • Góður starfsandi og öflugt starfsmannafélag Umsóknir sendist til Frumherja hf fyrir 1. febrúar 2017 á netfangið sigga@frumherji.is eða á heimasíðu Frumherja www.frumherji.is Öllum umsóknum verður svarað og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Sigríður verkefnastjóri starfsmannamála í s. 570 9144. Frumherji hf. var stofnað árið 1997 og er starfar fyrirtækið við ýmiskonar skoðanir og prófanir ásamt annarri tengdri þjónustu. Frumherji starfar nú á átta mismunandi sviðum á um 30 stöðum á landinu og eru flest starfssvið fyrirtækisins rekin samkvæmt viðurkenndum gæðastöðlum.
●●Körfuboltakempa orðinn landsliðsþjálfari í pílukasti Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is
Pétur Rúðrik Guðmundsson er Suðurnesjamönnum helst kunnur sem leikmaður og þjálfari í körfubolta þar sem hann átti farsælan feril með Keflavík og Grindavík. Hann hefur nú hafið nýjan feril í annarri íþrótt sem hann hyggst koma á kortið. Pétur er nú landsliðsmaður og þjálfari undir 18 ára landsliðs Íslands í pílukasti sem hann segir ört vaxandi íþrótt. Pétur sjálfur hefur verið að kasta pílum í um 20 ár öðru hvoru samhliða körfuboltanum. Þegar hann var upp á sitt besta í körfunni keppti hann líka í pílu án þess þó að leggja mikla áherslu á þá íþrótt. „Ég var þannig spilari að ég gat unnið þá sem voru fyrir neðan þá bestu og var hættulegur þeim bestu öðru hvoru,“ segir Pétur sem hafði þó verið í góðri pásu frá pílunni þar til að Alex Máni sonur hans fór að sýna íþróttinni áhuga fyrir tveimur árum. Strákurinn hafði þá verið að kasta hjá afa sínum og vildi setja upp píluspjald á heimilinu. „Því var sett upp spjald og við höfum verið að kasta eins og vitleysingar síðan og mætt í öll mót sem við komust í,“ segir Pétur. Alex er að spila við meistaraflokksmenn og er þar yfir pari og Pétur er sjálfur kominn í landsliðið eins og áður segir. Hann er ennþá örlítið betri en strákurinn en þó er bilið stöðugt að minnka. Pétur sóttist svo eftir því að þjálfa yngri iðkendur en engin unglingalandslið hafa verið starfrækt í pílu þar til nú. „Ég á stráknum það að þakka að ég er kominn svona djúpt í þetta núna.“ Pétur var sigursæll í körfuboltanum og annálaður keppnismaður. Það sama gildir í pílunni og hann hugsar með sér að hann sé á vítalínunni og leikurinn sé undir í hvert einasta skipti sem hann kastar pílu. Körfuboltinn kemur að góðum notum í pílu að sögn Péturs enda er kasthreyfingin þar mjög svipuð skothreyfingunni í körfuboltanum. „Ég grínaðist alltaf með það að menn eru bestir á milli fertugs og sextugs í pílunni og er kannski að fylgja því ómeðvitað.“
Draumur Péturs að þeir feðgar leiki saman fyrir Ísland á ólympíuleikunum.
Pétur segir margt heillandi við píluna. „Ég er svolítill keppnismaður en það tók mig smá tíma að tengja keppnisskapið við pílu. Það er að heilla mig að ég er ennþá að keppa og er að stefna að markmiðum. Svo er ótrúlega gaman að stúdera píluna og pæla í hvað menn eru að gera.“ Flestir hafa prufað pílu og haft gaman af en kannski ekki stefnt að því að ná árangri í íþróttinni. En hvað þarf til? „Eins og í öllu öðru þá þarftu að æfa þig og fara á hverjum degi að kasta. Ég horfi á þetta eins og körfuna og reyni að æfa á hverjum degi. Ef maður ætlar að verða góður þá er um að gera að mæta á þau mót sem eru í boði.“
Gaman af stærðfræði án þess að fatta það
Pílukast er nú í boði sem valfag í grunnskóla Grindavíkur. Pétur segir píluna vera gott tól fyrir nemendur að æfa einbeitinguna eins sem íþróttin snýst að miklu leyti um stærðfræði. „Þú ert að hafa gaman af stærðfræði án þess að fatta það þar sem þú ert stöðugt að reikna.“ Pétur stefnir á að breiða út boðskap pílunnar í sveitafélögum á Suðurnesjum og í skólum á svæðinu. „Píla er í grunninn pöbba- og bílskúrssport
og er ennþá þar. En á sama tíma er vöxturinn í pílunni orðinn gríðarlegur. Það er að verða til unglingastarf þar sem unglingar alast upp við að þetta sé alvöru sport þar sem til eru stórar og miklar atvinnumannadeildir.“ Á Íslandi mæta svo í hverri viku um 100 manns að keppa í sérstakri deild og í Reykjavík eru alltaf 2 til 3 mót í viku, þannig að senan hér er nokkuð öflug. Pétur á sér háleit markmið og sér fyrir sér að píla muni verða í boði á ólympíuleikum framtíðarinnar. „Minn draumur er sá að ég og drengurinn munum spila fyrir Ísland á ólympíuleikunum en ég sé sportið komast þar inn eftir kannski átta ár. Fyrir mér er það mjög heillandi hvort sem það verður að veruleika eða ekki þá er ég búinn að setja mér það sem markmið.“ Pétur er ennþá að þjálfa yngri flokka í körfuboltanum í Grindavík en hann segir íþróttirnar gagnast hvorri annarri. „Hugurinn er mikilvægur í öllum íþróttagreinum. Minn styrkleiki í körfunni var ekki tæknilegir hæfileikar en ég var mjög meðvitaður um hvað þurfti að gera hugarfarslega til þess að ná þeim árangri miðað við þá hæfileika sem ég hafði. Það sama gildir í pílunni,“ segir Pétur að lokum.
fimmtudagur 19. janúar 2017
19
VÍKURFRÉTTIR
KÖRFUBOLTASNILLINGUR
MÆTIR Á MORGUNÆFINGAR OG Í METABOLIC Njarðvíkingurinn Vilborg Jónsdóttir er körfuboltasnillingur Víkurfrétta þessa vikuna. Hún á sér markmið um að komast í atvinnumennsku. Hún hefur alltaf haldið með Golden State og hennar eftirlætis leikmaður er Logi Gunnarsson. Hvað æfir þú oft í viku? Fimm körfuboltaæfingar, tvær morgunæfingar og einn metabolic tími. Hvaða stöðu spilar þú? Ég spila dripplara eða ás.
Elvar meðal þeirra 100 bestu í háskólaboltanum
Hver eru markmið þín í körfubolta? Markmið mín eru að verða atvinnumaður í körfu.
Skemmtilegasta æfingin? Það eru allar æfingar skemmtilegar en skemmtilegustu eru varnaræfingarnar. Leiðilegasta æfingin? Það er engin leiðinleg æfing bara mis skemmtilegar. Eftirlætis körfuboltamaður/ kona á Íslandi? Uppáhalds leikmaðurinn minn á Íslandi er Logi Gunnarsson í Njarðvík. Eftirlætis körfuboltamaður/ kona í NBA? Uppáhalds leikmaðurinn minn i NBA er Klay Thompson Lið í NBA? Alltaf haldið með Golden state.
KEFLAVÍK - GRINDAVÍK TM-HÖLLIN LAUGARDAGINN 21. JANÚAR KL. 15:30
ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
■■Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson er einn af 100 bestu leikmönnum sem leika með minni háskólum í bandaríska háskólakörfuboltanum. Elvar, sem leikur með Barry háskólanum í Miami, hefur leikið glimrandi vel á tímabilinu þar sem hann hefur skorað 14,6 stig, gefið 8,1 stoðsendingar ásamt því að vera með 90% vítanýtingu. Elvar Már er í 5. sæti yfir þá leikmenn sem gefið hafa flestar stoðsendingar í háskólaboltanum í heild sinni. Listinn verður svo skorinn niður í 50 leikmenn á næstunni.
SUÐURNES - REYK JAVÍK SÍMI: 845 0900
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
60%
ALLT AÐ
AFSLÁTTUR
SÚPER ÚTSÖLU LÝKUR 23. JANÚAR Fjöldi vöruflokka og mörg þúsund vörur á súper afslætti
BRAUÐRISTAR, kaffivélar & handþeytarar (ELECTROLUX) 30% • Ryksugur 20-30% • blandarar 25-45% • Flísar 30-60% • parket 30% Ljós 30-50% • Blöndunartæki (damixa) 25% • Rafmagnsverkfæri 20-40% • Handverkfæri 20-40% • Verkfæratöskur 30-40% Háþrýstidælur 30% • málning 25% • áltröppur og stigar 25% • Vinnuskór 25-40% • hnífapör, matarstell & glös 25% Pottar, pönnur & bökunarvara 30% • plastkassar 25-50% • Innihurðir 20-40% ...OG ÓTAL MARGT FLEIRA! Byggjum á betra verði
Vefverslun
husa.is
Afslættir á útsölu gilda ekki af vörum merktum „lægsta lága verð Húsasmiðjunnar“ og tilboðsvörum - Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana.
Aldur og félag: 14 ára/Njarðvík.
MEISTARAFLOKKUR KVENNA
Mundi
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
facebook.com/vikurfrettirehf
Búast við fleirum á HSS næstu daga vegna inflúensunnar ■■Inflúensan hefur gert vart við sig og má gera ráð fyrir að þeim sem leita til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja vegna hennar muni fjölga nokkuð næstu daga og vikur. Á vef Landlæknisembættisins segir að flensan sé af stofni sem leggist sérstaklega þungt á eldri borgara, sem er í samræmi við staðfest tilfelli hér á landi upp á síðkastið.
Áfram íbúafjölgun í Vogum ■■Árið 2016 var annað árið í röð sem íbúum Sveitarfélagsins Voga fjölgaði. Árin þar á undan einkenndust af fækkun íbúa, allt frá árinu 2008. Viðsnúningurinn hófst síðan í upphafi árs 2015, en það ár fjölgaði íbúum sveitarfélagsins um 4%. Árið 2016 varð enn meiri fjölgun, eða tæp 6%. Íbúum Sveitarfélagsins Voga hefur því fjölgað úr 1.102 í upphafi árs 2015 í 1.213 í árslok 2016, eða um 10%.
72% hafa áhyggur af mengun í Helguvík
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ 12–16 OG SUNNUDAG FRÁ 13–16. ALLIR VELKOMNIR
STÓRSÝNING UM HELGINA
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ 12–16 OG SUNNUDAG FRÁ 13–16. ALLIR VELKOMNIR
LÆKKAÐ BÍLUM LÆKKAÐ VERÐ VERÐÁÁÖLLUM ÖLLUMNÝJUM NÝJUM BÍLUM LÆKKAÐ VERÐ Á ÖLLUM NÝJUM BÍLUM
REGLUBUNDNAR TILTIL REGLUBUNDNARÁBYRGÐARSKOÐANIR ÁBYRGÐARSKOÐANIR * ÞRIGGJA Í JANÚAR ÞRIGGJA ÁRA ÁRA FYLGJA FYLGJA ÖLLUM ÖLLUMNÝJUM NÝJUMBÍLUM BÍLUM Í JANÚAR
FJÖLDI SPENNANDI JANÚARTILBOÐA
Þeir bílbíl í janúar fá þriggja ára þjónustukaupauka. Með kaupaukanum geta Þeir sem semkaupa kaupanýjan nýjan í janúar fá þriggja ára þjónustukaupauka. Með kaupaukanum geta viðskiptavinir notiðnotið þess þess að koma með bílinn árlegarí árlegar áskildar áskildar skoðanir skoðanir sem viðskiptavinirjanúarmánaðar janúarmánaðar að koma meðí bílinn sem viðhalda bílsins án án þess að greiða neitt neitt aukalega. Ávinningurinn er verulegur því viðhaldaábyrgð ábyrgð bílsins þess að greiða aukalega. Ávinningurinn er verulegur því reglubundnar ábyrgðarskoðanir í þrjúí ár kosta á bilinuá bilinu 120.000 – 200.000 kr. reglubundnar ábyrgðarskoðanir þrjú ár kosta 120.000 – 200.000 kr.
ÁBYRGÐARSKOÐANIR - OLÍUSKIPTI - OLÍUSÍUR ÁBYRGÐARSKOÐANIR - OLÍUSKIPTI - OLÍUSÍUR - LOFTSÍUR ÁBYRGÐARSKOÐUN INNIFALIN Í- 3LOFTSÍUR ÁR! *Janúartilboðingilda gildaekki ekkimeð með öðrum afsláttum tilboðum. *Janúartilboðin öðrum afsláttum eðaeða tilboðum.
100.000 kr. GJAFAKORT FYLGIR NÝJUM FYLGIR NÝJUM BÍLBÍL Í Í JANÚAR JANÚAR
Ekki verulega
100.000 kr. GJAFAKORT
Hef miklar áhyggjur
10
20
30
40
50
60
MEST LESIÐ Á WWW.VF.IS: ■■Áreittu börn í strætó og gerðu aðsúg að lögreglu ■■Heyrðu þyrlu þjóta yfir Garðskaga til vesturs ■■Banaslys á Grindavíkurvegi ■■Léttir að fella grímuna
JANÚARHAPPDRÆTTI
SVO ER LÍKA HÆGT AÐ SLEPPA ÖLLU OG FÁ STAÐGREIÐSLU AFSLÁTT
Þeir sem kaupa nýjan bíl í janúar fá þriggja ára þjónustukaupauka. Með kaupaukanum geta viðskiptavinir janúarmánaðar þess að koma með bílinn í árlegar áskildar skoðanir sem Allir viðskiptavinir BL sem kaupa nýjan bílnotið í janúar verða sjálfkrafa ábyrgð bílsins þess að verða greiðadregnir neitt aukalega. þátttakendurviðhalda í janúarhappdrætti okkar.án Í lok janúar út glæsilegirÁvinningurinn er verulegur því ábyrgðarskoðanir í þrjúkrónur. ár kosta á bilinu 120.000 – 200.000 kr. happdrættisvinningar fráreglubundnar ELKO að verðmæti samtals 1.500.000
JANÚARHAPPDRÆTTI
KÍKTU Í KAFFI EÐA HRINGDU FYLGIR NÝJUM BÍL Í JANÚAR
0
REGLUBUNDNAR ÁBYRGÐARSKOÐANIR TIL ÞRIGGJA ÁRA FYLGJA ÖLLUM NÝJUM BÍLUM Í JANÚAR *
Þeir sem kaupa kaupa nýjan nýjanbíl bílhjá hjáBL BLííjanúar janúar fá í kaupbæti kaupbæti 100.000 100.000kr. kr. gjafakort gjafakortfrá frá VINNINGAR: Íslandsbanka. Kortið Kortið mámá nota semsem innborgun á nota innborgun á ÁBYRGÐARSKOÐANIR - OLÍUSKIPTI - OLÍUSÍUR - LOFTSÍUR nýja bílinn, skemmtilega sumarferð eða til að eða láta til að láta • 2x Samsung 65'' snjallsjónvarp nýja bílinn, skemmtilega sumarferð • 2x iPhone 7 Plus langþráðan draum rætast. langþráðan draum rætast. *Janúartilboðin gilda ekki með öðrum afsláttum eða tilboðum. • 4x Bose SoundLink mini II hátalarar • 4x Garmin Edge 520 með púlsmæli og hraðamæli • 4x Garmin Vivosmart heilsuúr. 65" SAMSUNG
Já
Nei
20%
STÓRSÝNING UM HELGINA
ÁBYRGÐARSKOÐUN INNIFALIN Í 3 ÁR!
52% 10%
instagram.com/vikurfrettir
FJÖLDI SPENNANDI SPENNANDI JANÚARTILBOÐA FJÖLDI JANÚARTILBOÐA
■■Mikill meirihluti Suðurnesjamanna virðist hafa miklar áhyggjur af mengun frá kísilveri United Silicon í Helguvík miðað við könnun sem gerð var á Víkurfréttavefnum, vf.is. Alls tóku 859 manns í könnuninni. Þeir sem sögðust hafa áhyggjur eða miklar áhyggjur voru 618 eða 72% þeirra sem tóku þátt. Þeir sem sögðust engar áhyggjur hafa eða verulega litlar áhyggjur voru 250 eða um 28%. Ný spurning hefur verið sett fram á vf.is en þar er spurt hvort fólk stundi líkamsrækt.
18%
twitter.com/vikurfrettir
Vogamenn fjölga sér hraðar en kanínur.
Allir viðskiptavinir BL sem kaupa nýjan bíl í janúar verða sjálfkrafa þátttakendur í janúarhappdrætti okkar. Í lok janúar verða dregnir út glæsilegir BL ehf happdrættisvinningar frá ELKO að verðmæti samtals 1.500.000 krónur. Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
Þeir sem kaupa nýjan bíl hjá BL í janúar NÝ HEIMASÍÐA ER KOMIN LOFTIÐ – www.bl.is fá í kaupbætiÍ100.000 kr. gjafakort frá Íslandsbanka. Kortið má nota sem innborgun á nýja bílinn, skemmtilega sumarferð eða til að láta langþráðan draum rætast.
VINNINGAR:
420 0400 • • • • •
2x Samsung 65'' snjallsjónvarp 2x iPhone 7 Plus 4x Bose SoundLink mini II hátalarar 4x Garmin Edge 520 með púlsmæli og hraðamæli 4x Garmin Vivosmart heilsuúr.
NÝ HEIMASÍÐA ER KOMIN Í LOFTIÐ – www.bl.is www.gebilar.is
525 8000 / www.bl.is
65" SAMSUNG
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is