Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
www.lyfja.is
Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17
16%
12%
af lyfjum utan greiðsluþátttöku
af lausasölulyfjum og öðrum vörum
afsláttur
Sími: 421 0000
Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ.
Auglýsingasíminn er 421 0001 Lyfja Reykjanesbæ, Krossmóa 4, sími 421 6565
afsláttur
Við stefnum að vellíðan.
Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19, laugard. 10–16, sunnud. 12–16
vf.is
F IMMTUDAGUR INN 29. JANÚAR 2 0 15 • 4. TÖ LU BLA Ð • 36. Á RGA NGU R
■■ Enn einn hitafundurinn í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Minnihluti sjálfstæðismanna ekki sammála nýjum meirihluta varðandi skipulagsbreytingar og uppsagnir yfirmanna bæjarins:
Uppsagnir yfirmanna og skipulagsbreytingar hluti af hagræðingu - fimm svið í stað sjö. Starf bæjarritara lagt niður. Ný störf sviðsstjóra auglýst.
S
FÍTON / SÍA
amstaða hjá meiri- og minnihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem mikil áhersla hefur verið lögð á í endurreisn fjárhagsstöðu bæjarfélagsins var svo sannarlega ekki fyrir hendi á auka bæjarstjórnarfundi sl. þriðjudag þegar tillaga um nýtt skipurit bæjarins var samþykkt. Þá var einnig samþykkt að segja upp framkvæmdastjórum framkvæmdasviða en í skipulagsbreytingum er gert ráð fyrir því að leggja tvö niður. Embætti bæjarritara verður einnig lagt niður. Störf nýrra sviðsstjóra verða auglýst. Þessar tillögur að nýju stjórnskipulagi sem Capacent hefur unnið fyrir Reykjanesbæ og taka á gildi 1. júní nk. voru kynntar á bæjarráðsfundi sl. fimmtudag. Friðjón Einarsson (S) lagði fram á bæjarstjórnarfundinum sl. þriðjudag tillögu fyrir hönd meirihluta bæjarstjórnar um að segja upp ráðningarsamningum allra framkvæmdastjóra og að sviðsstjórar sem verði ráðnir í nýju skipuriti komi að vinnu við lokafrágang innra skipulags hvers sviðs, niðurröðun og mönnun verkefna og samstarfs á milli sviða. Þeirri vinnu verði lokið 1. júní þegar nýtt skipulag tekur gildi.
einföld reiknivél á ebox.is
Friðjón lagði fram aðra bókun vegna uppsagna framkvæmdastjóranna sem byggir á því sjónarmiði að eitt skuli yfir alla ganga. „Þær veigamiklu breytingar sem verið er að gera á skipuriti sveitarfélagsins gera það að verkum að ákveðin störf eru lögð niður og þeir starfsmenn sem sinnt hafa þeim verkum missa þar með vinnu sína. Í því ljósi og til þess að allir sitji við sama borð er tillaga um uppsagnir allra framkvæmdastjóra fram komin,“ segir m.a. í bókuninni. Böðvar Jónsson (D) lagði fram breytingatillögu frá sjálfstæðismönnum varðandi skipulagsbreytingarnar, að fagsvið verði fjögur í stað þriggja og við bætist sérstakt atvinnumálasvið. Einnig að stoðsviðin verði
þrjú í stað tveggja. „Síðustu ár hefur verið lagður grunnur að fjölda vel launaðra starfa m.a. í Helguvík sem gætu bæði leitt til aukinna tekna fjölda íbúa og um leið aukinnna tekna sveitarfélagsins. Á meðan þeim verkefnum er siglt í höfn teljum við mikilvægt og nauðsynlegt að málaflokkurinn fái sterkara vægi í skipuriti sveitarfélagsins en gert er ráð fyrir í tillögu meirihlutans,“ segir í bókun Sjálfstæðisflokks. Sjálfstæðismenn lögðu einnig fram bókun um uppsagnirnar. „Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjast eindregið gegn tillögu um uppsögn allra framkvæmdastjóra sveitarfélagsins og telja að með því séu bæjarfulltrúar meirihlutans að stofna í hættu mikilvægri
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
þekkingu og reynslu starfsmanna sem sumir hafa starfað hjá sveitarfélaginu um áratuga skeið. Með ákvörðuninni er hætta á að Reykjanesbær missi frá sér afburða stjórnendur sem hafa reynst mikil stoð fyrir samfélagið í gegnum tíðina.“ Tvær tillögur sjálfstæðismanna um aðra útfærslu á skipuriti voru felldar 6-4. Tillaga meirihlutans um nýtt skipurit voru samþykktar með atkvæðum fulltrúa meirihlutans og atkvæði fulltrúa Framsóknar. Tillaga meirihlutans um uppsögn á ráðningarsamningum framkvæmdastjóranna var samþykkt með atkvæðum meirihlutans. Sjálfstæðismenn og Kristinn Jakobsson, Framsóknarflokki greiddu atkvæði gegn þeirri tillögu. Það er því ljóst að sjö framkvæmdastjórar jafn margra sviða hafa fengið eða eru að fá uppsagnarbréf en þá mun starf bæjarritara einnig verða lagt af. Hjörtur Zakaríasson bæjarritari til 29 ára er að hætta og hans verkefni munu í nýju skipuriti falla undir nýtt stjórnsýslusvið. Auglýst hafði verið að fundurinn yrði lokaður en hætt var við það á síðustu stundu. Það gerði það að verkum að bæjarfulltrúar sátu einir á fundinum utan eins gests sem lét sjá sig.
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
900 manns horfðu til himins á Garðskaga XXUm 900 manns horfðu á norðurljósin dansa um himinhvolfið á Garðskaga á þriðjudagskvöld. Tuttugu rútur frá ferðaþjónustufyrirtækjum fylltu öll bílastæði á Garðskaga og fólkið stóð í hópum við vitana og á túnum og virti fyrir sér ljósadýrðina. Hægt er að fylgjast með spá um norðurljós á vef Veðurstofu Íslands og í kvöld, fimmtudagskvöld og einnig föstudagskvöld, en gert er ráð fyrir talsverðri virkni norðurljósa yfir Suðurnesjum og léttskýjuðu. Það má því áfram eiga von á örtröð norðurljósaskoðara á Garðskaga og víðar á svæðinu.
Tvöhundruð lúðrarsveitarkrakkar í Hljómahöll XXUm tvöhundruð krakkar mættu á landsmót skólalúðrasveita í Hljómahöll um síðustu helgi. Nemendurnir komu frá tólf stöðum á landinu. Að sögn Hörpu Jóhannsdóttur, tónlistarkennara í Tónlistarskóla Reykanesbæjar, heppnaðist mótið mjög vel og gestirnir nutu þess að vera í glæsilegri aðstöðu í Hljómahöllinni. Tvennir tónleikar voru haldnir á mótinu og voru þeir í Stapa. Meðfylgjandi myndir voru teknar á seinni tónleikunum. Sjónvarp Víkurfrétta ræddi við Hörpu og má sjá viðtalið í þætti vikunnar sem er sýndur í kvöld kl. 21:30 og er einnig hægt að sjá á vf.is.
2
fimmtudagurinn 29. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
TJARNARSEL
-fréttir
pósturu vf@vf.is
ATVINNA Leikskólinn Tjarnarsel auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starf. Hann þarf að geta hafið starf eigi síðar en 1. mars nk. Leikskólastarfið í Tjarnarseli byggir á fjölbreyttum starfs- og kennsluháttum, mál og læsi, útinámi og umhverfismennt. Umsóknarfrestur er til 12. febrúar nk. Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf.
LJÓSANÆTURFUNDUR MEÐ BÆJARBÚUM
Ertu með hugmynd að viðburði, tónleikum, afþreyingu eða einhverju öðru skemmtilegu? Menningarráð heldur fund um Ljósanótt og framkvæmd hennar árið 2015 í Bíósal Duushúsa miðvikudaginn 11. febrúar kl. 19:30. Ráðið hvetur bæjarbúa sem eru með hugmyndir eða langar að taka þátt í enn frekari uppbyggingu á Ljósanótt velkomna. Allir áhugasamir bæjarbúar eru boðnir velkomnir til skrafs og ráðagerða. Menningarráð Reykjanesbæjar
LISTASAFN REYKJANESBÆJAR
LEIÐSÖGN
Sunnudaginn 1. febrúar kl. 15:00 verður Björg Erlingsdóttir, sýningarstjóri, með leiðsögn um sýningu safnsins á verkum Gunnlaugs Scheving, Til sjávar og sveita. Heitt á könnunni og allir velkomnir.
FRÆÐSLUFUNDUR
Tímamótatvíburar leystir út með gjöfum T
víburabræðurnir A og B eru sannkallaðir tímamótatvíburar í Grindavík því annar þeirra er Grindvíkingur númer 3000 og hinn er númer 3001. Foreldrar drengjanna eru Sigrún Ísdal Guðmundsdóttir og Steinar Nói Kjartansson en tvíburarnir eru þeirra fyrstu börn. Þau voru mætt á fund bæjarstjórnar Grindavíkur í vikunni með drengina sína til sérstakrar móttöku en bæjaryfirvöld vildu færa þeim gjafir og viðurkenningar á þessum tímamótum. Tvíburarnir fengu silfurskírnarhólka sem á var grafið merki Grindavíkurbæjar og textinn „Grindavíkurbær - íbúi númer 3000“. Þá verða nöfn drengjanna einnig grafin á hólkana þegar fram líða stundir en skírnarhólkarnir eru gjöf frá Grindavíkurbæ. Þá fengu for-
eldrar drengjanna einnig 30.000 króna gjafabréf frá Nettó í Grindavík og sömu fjárhæð í Nettó frá Grindavíkurbæ. Drengirnir tveir eiga örugglega eftir að verða miklir íþróttakappar, því þrátt fyrir að vera aðeins nokkurra vikna gamlir, þá eru þeir þegar komnir með gjafabréf upp á vasann frá Íþróttaskóla UMFG. Þar sem Grindavík er mikill sjávarútvegsbær, þá fengu foreldrarnir einnig gjafabréf upp á 5 kg. af fiski sem Einhamar Seafood gefur. Ungu mennirnir tveir kipptu sér ekki mikið upp við umstangið á bæjarstjórnarfundinum í vikunni og sváfu af sér athöfnina og misstu því alveg af því þegar Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Kristín María Birgisdóttir forseti bæjarstjórnar deildu út gjöfunum.
Grindvíkingar fá ekki undanþágu ráðuneytis
Sjónvarp Víkurfrétta á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30
Allir velkomnir, ókeypis aðgangur.
LÉTTUR FÖSTUDAGUR Á NESVÖLLUM LJÓSMYNDIR JÓNS TÓMASSONAR
Í safni Jóns Tómassonar er mikið af góðum og áhugaverðum myndum. Litlar upplýsingar fylgdu þó með myndunum og leitum við nú liðsinnis almennings við að finna nöfn á fólki, stöðum og fleira. Við verðum á Nesvöllum föstudaginn 30. janúar frá kl. 14:00 - 16:00 með úrval af myndum sem við sýnum á tjaldi og höfum prentað út. Með von um góðar undirtektir. Byggðasafn Reykjanesbæjar
Rafmagnaður þáttur á ÍNN kl. 21:30 í kvöld ★ Opnun Joe & the Juice í Flugstöð Leifs Eiríksson ★ Ný líkamsræktarstöð í Garðinum ★ Rafmagnaður Golf frá Heklu í Reykjanesbæ ★ Þorrablótið í Garði ★ Þrjár sýningar í Duushúsum ★ Söngur og gleði á þorrablóti Hrafnistu ★ Lúðrablástur í Hljómahöll
Viltu auglýsa í Sjónvarpi Víkurfrétta? Nánari upplýsingar gefur Páll Ketilsson á pket@vf.is
Kli p p t u ú t a uglýs in gu na og sett u á í sská p i nn
Miðvikudaginn 4. febrúar kl. 17:30 kemur Viðar Oddgeirsson kvikmyndatökumaður í heimsókn og segir frá safni hreyfimynda sem hann hefur unnið að sl. 30 ár í samvinnu við Byggðasafnið. Hann fer yfir söguna og sýnir safnið með myndbrotum á tjaldinu.
✁
Í BÍÓSAL DUUSHÚSA
XXUmsókn Grindavíkurbæjar um undanþágu frá ákvæðum um lágmarksíbúafjölda á þjónustusvæði um málefni fatlaðs fólks hefði verið synjað. Bæjarstjóri greindi bæjarráði Grindavíkurbæjar frá þessu þar sem tekin var til umfjöllunar tillaga um stefnumótun á þjónustusvæði Suðurnesja um málefni fatlaðs fólks. Í svari ráðuneytisins kemur fram að til skoðunar er að gera breytingar á ákvæðinu í lögum. Endurmati á yfirfærslu verkefnisins frá ríki til sveitarfélaga hefur verið frestað til loka apríl og því lítur ráðuneytið svo á að samningar milli sveitarfélaga um þjónustusvæði séu enn í gildi.
Of fámenn fyrir fatlaða
XXS a m r á ð s n e f n d u m m á l efni fatlaðs fólks hefur svarað félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitarfélagsins Voga vegna umsóknar um undanþágu frá lögum varðandi lágmarksíbúafjölda þjónustusvæða til að mynda þjónustusvæði fyrir fatlað fólk. Samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks telur ekki fært að mæla með undanþágu að óbreyttum lögum. Málið var tekið fyrir á síðasta fundi bæjarráðs Garðs þar sem Magnús Stefánsson bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum og bréfaskrifum. Framundan eru frekari viðræður um málið.
ÍSLENSKA SIA.IS FLE 72676 01/15
Nánari upplýsingar veitir leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóri Tjarnarsels. Einnig má nálgast upplýsingar um leikskólann, á vefsíðunni, www.tjarnarsel.is.
ÍSLENSKA SIA.IS FLE 72676 01/15
Verið velkomin á Joe & the Juice í flugstöð Leifs Eiríkssonar Frá og með deginum í dag getur þú komið við á Joe & the Juice á jarðhæð flugstöðvarinnar, fyrir eða eftir flug, og hresst þig við. Joe & the Juice býður upp á ferska djúsa gerða á staðnum, kaffi og úrval af samlokum. Staðurinn er opinn öllum, hvort sem þú ert að koma heim, fara erlendis, fylgja farþegum eða vilt koma sérstaklega í flugstöðina til þess að grípa þér gómsætan bita. Opið frá 5.30 til 20.00. Frítt að leggja fyrstu 15 mínúturnar. Sími: 431-3849
Betri flugstöð í vændum! Við erum að breyta og bæta í flugstöðinni. Í maí 2015 opnum við nýtt verslunar- og veitingasvæði. Allar frekari upplýsingar á www. kefairport.is/betterairport
Markhönnun ehf
Verð sprengja Kræsingar & kostakjör
KjúKlingalundir
KjúKlingabringur
frosnar 700g
nettó
-44% 986
1.798
áður 1.761 Kr/pK
áður 1.998 Kr/Kg
frábærir í sósuna eða plokkfiskinn
ÞorsKbitar
MatreiðslufisKur
-20% 798
áður 998 Kr/Kg
grísapottréttur í sveppasósu
-30% 1.378
-3
áður 1.969 Kr/Kg
heilsu lífsstí
umhverfið og lífi Allt fyrir heilsuna, og lífsstílsvörum spennandi heilsuað þetta bla og þekkja. Við vonum við. því þangað stefnum
stjörnugrís
-40% 779
áður 1.298 Kr/Kg
grísaKjötfars
400g - stjörnugrís
-50% 149
áður 298 Kr/pK
markhönnun ehf
grísahaKK
www.netto.is · Hv | Mjódd · Salavegur
ís
3 teg
359 áður 399 Kr/Kg
Tilboðin gilda 29. jan. -1. feb. 2014 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
r 125 3 áð
pizzur
-32% 299
4 teg.
áður 439 Kr/Kg
r
pítabuff
ó
laMbaKótelettur
M/ 6 brauðuM
fersK
-25% 995
g
-35% 1.658
áður 1.327 Kr/pK
áður 2.551 Kr/Kg
Verkuð á gamla máTann!
andaleggur
svið
M/læri
frosið - fjallalaMb
-30% 1.444
-10% 494
áður 2.063 Kr/Kg
áður 549 Kr/Kg
Allt fyrir heilsuna, umhverfi ð og lífið á aðeins grænni spennandi heilsu- og hátt. Í Nettó finnur þú lífsstílsvörum. Við viljum fjöldann allan af auðvelda þér að finna og þekkja. Við vonum þær, fræðast um þær að þetta blað auðveldi þér leiðina að heilnæm því þangað stefnum við. ari og grænni tilveru
allan af Í Nettó finnur þú fjöldann á aðeins grænni hátt. að finna þær, fræðast um þær umhverfið og lífið a þér Allt fyrir heilsuna, Við viljum auðveld ari og grænni tilveru og lífsstílsvörum. i þér leiðina að heilnæm spennandi heilsuað þetta blað auðveld og þekkja. Við vonum við. því þangað stefnum
ALLt AÐ
ALLt AÐ
5% 2 AFSLáttur
25% AFSLáttu r
AF LÍFSStÍLS & HeiLSuVöruM
AF LÍFSStÍLS & HeiLSuVöruM
þeytiNgur LÍFrÆNt
þeytiNgur LÍFrÆNt krÍLiN
markhönnun ehf
krÍLiN SÉrFÆÐi HOLLuStA
markhönnun ehf
heilsu & 25% lífsstílsdagar afsláttur allt að
heilsu & lífsstílsdagar
heilsu & agar lífsstílsd
ík · Reykjan www.netto.is · Akureyri · Höfn · Grindav · Hverafold · Grandi | Mjódd · Salavegur
rifsber 125 G Box 384 kR/pk áðuR 549 kR
SÉrFÆÐi HOLLuStA
uPPByggiNg uMHVerFiÐ
www.netto.is jan - 1. feb. 2015 tilboðin gilda 15. | Mjódd · Salavegu myndavíxl r · Hverafol og eða· Akureyri d · Grandi a um villur · Höfn · Grindavík · Reykjane | birt með fyrirvar sbær
· Egilsstaðir · Selfoss esbær · Borgarnes
nóg til!
uPPByggiNg uMHVerFiÐ · Borgarnes · Egilsstaðir
Heilsudögum lýkur 1. febrúar Gerið góð kaup!
af lífsstíls & heilsuvörum
tilboðin gilda · Selfoss | birt með fyrirvara 15. jan - 1. feb. 2015 um villur og eða myndaví xl
-30%
brómber 125 G Box 384 kR/pk áðuR 549 kR
-30%
Hindber 125 G Box 412 kR/pk áðuR 588 kR
-30%
www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |
bláber 125 G Box 384 kR/pk áðuR 549 kR
6
fimmtudagurinn 29. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-ritstjórnarbréf
-viðtal
pósturu vf@vf.is
Olga Björt Þórðardóttir skrifar
Samstöðumáttur kærleikans
Það er nær ógerlegt að reyna að setja sig í spor foreldra sem horfa á barnið sitt þjást og geta ekkert gert; hvað þá tvö börn. Rut Þorsteinsdóttir og eiginmaður hennar, Chad Keilen, hafa í tíu ár staðið í baráttu við heilbrigðis- og velferðarkerfið vegna dætra sinna, Helenu Sólar og Emilíu Ísabel, sem eru mikið fatlaðar og flogaveikar. Vegna óvissu um hvað hrjáir systurnar og hvernig mögulega sé hægt að bæta líðan þeirra ákváðu hjónin að leita út fyrir landsteinana til að koma stúlkunum í meðferð sem ekki er í boði hér á landi. Þar dvelur fjölskyldan næstu vikurnar. Samhliða áföllum, óvissu og ströggli hafa Rut og Chad þurft að mæta mótlæti eins og að vera vænd um Munchausen heilkennið. Það lýsir sér þannig að foreldrar, oftast móðir, vilja að eitthvað sé að barni sínu. „Okkur var aldrei veitt áfallahjálp, allt var keyrt áfram og okkur hent út í djúpu laugina og við áttum bara að læra að bjarga okkur. Þegar maður er nýr þá veit maður ekkert og skellurinn getur komið miklu seinna. Það vantar teymi sem heldur utan um svona foreldra,“ segir Rut í einlægu viðtali í nýjasta tölublaði Víkurfrétta. Fyrir fimm mánuðum fæddist þeim hjónum sonurinn Stefán sem veitt hefur þeim mikla gleði. Hann ber öll þess merki að vera heilbrigður. Einhverjir áttu erfitt með að samgleðjast og óska þeim til hamingju þegar Rut var ófrísk. „Fólk var að kjafta úti í bæ og að dæma okkur heima hjá sér. Þá finnur maður vel hversu gott fólk við höfum í okkar innsta hring sem studdi okkur vel. Við nefnilega ákváðum að lifa ekki í hræðslu,“ segir Rut í viðtalinu. Þegar Rut og Chad höfðu komist á snoðir um meðferð sem gæti gagnast dætrum sínum setti Chad færslu á Facebook sem hafði í för með sér afdrifaríkar afleiðingar. Þá sýndu Suðurnesjamenn hversu megnugir þeir geta verið og sýnt mikla samstöðu. Styrkir bárust allt frá skólafélögum systranna til slökkviliðsmanna BS. Fjölskyldan varð orðlaus, hrærð og þurfti líka dálítið í leiðinni að læra að þiggja. Það lýsir þeim því kannski vel að þegar Víkurfréttir höfðu samband við Rut vegna viðtals tók hún sérstaklega fram að hún vildi ekki tengja það við styrktarreikning. Við vitum þó að það er deginum ljósara að fólk í þeirra sporum þarf á stuðningi samfélagsins að halda. Við vitum aldrei í hverra sporum við gætum lent og orð og gjörðir endurspegla innri mann. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
+ www.vf.is
83% LESTUR Bónstöð Lúkasar Við höfum opnað nýja Bónstöð í Reykjanesbæ að Vatnsnesvegi 5. Bjóðum upp á alls konar þjónustu við þrif bifreiða og mjög gott verð. Sækjum og skilum bílum fínum og hreinum. Allir bílar eru handþvegnir, engir burstar eða kústar! Fagmenn og gæðaefni!
20% AFSLÁTTUR
á alla gerðir bíla út febrúar 2015, innifalið að sækja og skila bílnum. ENDILEGA HRINGDU EÐA KIKTU VIÐ, VIÐ MUNUM TAKA VEL Á MÓTI ÞÉR!
Sími 787 6677 vf.is
SÍMI 421 0000
■■Strætó hóf akstur frá Suðurnesjum 4. janúar. Veruleg óánægja var með leiðakefið og við því hefur Strætó brugðist með breytingum sem taka gildi 1. febrúar:
Breytingarnar unnar út frá ábendingum og beiðnum -Afar mikilvægt að farþegar sendi inn ábendingar til Strætó, segir Berglind Kristinsdóttir framkævmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (S.S.S.)
V
erulegar breytingar verða á akstri Strætó á Suðurnesjum frá og með 1. febrúar en akstur á vegum Strætó hófst 1. jan. sl. Eru breytingarnar unnar út frá ábendingum og beiðnum frá farþegum og sveitarfélögum. „Unnið hefur verið að úrbótum í leiðakerfinu. Það er því afar mikilvægt að farþegar sendi inn ábendingar til Strætó, því þá er hægt að bæta og aðlaga kerfið,“ segir Berglind Kristinsdóttir framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum við VF. Hún segir að meðal breytinga megi nefna að vagninn frá Tjarnarhverfi í InnriNjarðvík fer fyrr af stað upp í flugstöð (FLE) á virkum dögum, svo hann sé kominn fyrir vaktaskipti í flugstöðinni. „Biðstöðvum í fyrstu ferð á morgnana hefur verið bætt inn í leiðarkerfið. Þær eru Hringbraut/ Melteigur, Hringbraut/Norðurtún, Hringbraut/Knattspyrnuvegur auk þeirra stoppistöðva sem áður var auglýst. Ferðin sem fer 7:42 frá FLE mun aka alla leið í Umferðarmiðstöð í stað þess að stoppa í Firði. Vagnarnir stoppa líka lengur í Miðstöð svo bílstjórar hafi rýmri tíma en áður til að taka við fargjöldum. Ábendingar höfðu komið frá nemendum í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefur verið brugðist við þeim. Fyrsta ferð á morgnanna ekur fram hjá Fjölbrautaskólanum sem og 2 síðdegisferðir fara til baka út í Garð og Sandgerði. Morgunferðin verður því að leggja af stað tveimur mínútum fyrr úr Garði og Sandgerði svo að vagninn nái
gagnast myndi afar fáum. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum skrifaði undir samning við Vegagerðina árið 2008 en þá hafði Vegagerðin nýlokið við útboð. Kynnisferðir áttu hagstæðasta boðið og fengu samninginn. Samkvæmt lögum þarf að bjóða út svona stór verk að loknum samningstíma og var það gert á síðasta ári. SBK átti hagstæðasta boðið í akstur á leið 55 og 89 en Hópferðir Sævars áttu hagstæðasta tilboðið á leið 88. Við höfum ekki fengið uppAkstur Strætó frá gjör frá akstursaðilum en því Flugstöðinni var verður skilað inn um næstu nýjung fyrir Suðurnesjamenn. Nú hefur mánaðarmót. Við erum ekki að tjalda til einnar nætur leiðakerfinu verið en samningurinn okkar við breytt og það bætt eftir ábendingar frá Vegagerðina gildir til ársfarþegum og fleirum. loka 2019. Akstur til og frá FLE með strætó er því valkostur sem bætist við aðra samgönguvalkosti á þessari leið og vonumst við til þess að festa okkur vel í sessi á samningstímanum. frá Umferðamiðstöðinni kl. 7:55. Með því móti var komið á til móts Hvað með fjölgun stoppistöðva við nemendur Keilis en vagninn í Reykjanesbæ? verður þá fyrir utan Keili kl. 9:00 á „Stoppistöðvum hefur verið fjölgað í Reykjanesbæ í morgunferðunum. morgnana.“ Nú er byrjað að keyra frá flugstöð- Reykjanesbær rekur innanbæjarkerfi og hefur verið leitað til þeirra inni. Hvernig hefur það komið út. „Eftir að þáverandi innanríkisráð- um að samþætta tímatöflur þess herra ákvað að rifta hluta samnings kerfis betur við það kerfi sem við við Samband sveitarfélaga á Suður- erum með núna á milli byggðanesjum (S.S.S.) sem fól í sér að S.S.S. kjarna og höfuðborgarsvæðisins. hefði einkaleyfi á akstri frá flug- Leiðakerfi almenningsvagna eru í stöðinni varð að hugsa kerfið upp á stöðugri þróun og því er mikilvægt nýtt. Samgöngukerfið hafði fengið að notendur þess sendi allar ábendtekjur af þeirri leið og gaf tækifæri ingar um það sem betur má fara á því að halda uppi þjónustustig- hvort sem um er að ræða leiðarinu. Frá og með síðasta hausti hafa kerfi, tímatöflur, akstursvagna eða engar tekjur komið inn vegna þessa framkomu bílstjóra. Að sjálfsögðu einkaleyfis og því var það nauð- má líka hafa samband við þjónsynlegt fyrir stjórn S.S.S. að koma ustuver Strætó b.s. til að hrósa,“ með lausn. Að öðrum kosti værum sagði Berglind að lokum. við að horfa upp á ferðatíðni sem að verða kominn inn að Miðstöð þegar leið 55 ekur af stað á höfuðborgarsvæðið. Ferðum hefur verið bætt við á fimmtudögum og föstudögum til að koma til móts við þarfir nemenda úr Grindavík. Morgunferðin úr Grindavík stoppar auk þess við lögreglustöðina í Grindavík samkvæmt beiðni nemenda. Ferðin sem fór 9:23 frá Umferðamiðstöðinni hefur verið færð til og fer nú
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur P Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
KOMDU ÚT AÐ AKA MEÐ OPEL!
VINNUR ÞÚ HELGARREISU? Bílabúð Benna áskilur sér rétt til breytinga á verði og búnaði án fyrirvara
REYNSLUAKTU OPEL TIL ÞÝSKALANDS! Komdu í Opel salinn, Njarðarbraut 9 eða Tangarhöfða 8, Reykjavík og reynsluaktu Opel. Þú ferð í vinningspott og átt möguleika á að vinna glæsilega borgarferð fyrir tvo til Þýskalands. Opel fjármögnun – aðeins 5.95% óverðtryggðir fastir vextir í fimm ár.
Komdu til okkar og reynsluaktu nýjum Opel. Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18 og laugardaga frá 10 til 14. Verið velkomin í reynsluakstur.
Nánari upplýsingar: opel.is • benni.is Við erum á Facebook
Reykjavík Tangarhöfða 8 Sími: 590 2000
8
fimmtudagurinn 29. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-viðtal
pósturu olgabjort@vf.is
■■Hjón úr Reykjanesbæ fóru til Flórída í von um betri líðan fyrir tvær fatlaðar dætur sínar:
„Ákváðum að lifa ekki í hræðslu“ Rut Þorsteinsdóttir og eiginmaður hennar Chad Keilen hafa í tíu ár staðið í baráttu við heilbrigðis- og velferðarkerfið vegna dætra sinna, Helenu Sólar og Emilíu Ísabel, sem eru mikið fatlaðar. Ekki er enn vitað hvað hrjáir systurnar og erfiðast er fyrir þau hjón að horfa upp á þjáningu barna sinna en geta ekkert gert. Því ákváðu þau að leita út fyrir landsteinana og koma stúlkunum í meðferð sem þau vona að beri einhvern árangur. Þau eru afar þakklát viðbrögðum þeirra fjölmörgu sem hafa lagt hönd á plóg við að gera ferðina að raunveruleika. „Ég hef átt erfitt með að koma tilfinningum og upplifunum undanfarinna ára í orð. Reynslan, sársaukin, sorgin og gleðin er erfitt að lýsa. Ég hef sem betur fer gott fólk í kringum mig sem bendir mér á að við stöndum okkur vel. Við fáum bara ekki nógu mörg tækifæri til að líða eins og okkur ætti að líða vegna þess að þetta hefur verið og er stöðug barátta við kerfið,“ segir Rut. Auk Helenu, 10 ára og Emilíu, 8 ára, eiga þau Chad einnig tvo drengi; Thor, 12 ára og Stefán, fimm mánaða. Þegar Helena var 2ja mánaða tóku Rut og Chad eftir einkennum á henni sem þeim fannst ekki eðlileg og fóru með hana til heila- og taugasérfræðings. „Hann staðfesti að eitthvað mikið væri að. Við settumst út í bíl, horfðum á hvort annað og fórum svo heim með veika barnið okkar. Fengum engar upplýsingar eða leiðbeiningar.“ Fengu upplýsingar um Munchausen heilkennið Við tóku rannsóknir sem ekkert kom út úr, en talið var að þetta væri kannski meðgöngutengt. „Svo fæðist Emilía tveimur árum seinna og við gjörsamlega með stækkunarglerið á henni. Við 2-3 mánaða aldur tókum við eftir einkennum hjá henni sem voru svipuð og hjá Helenu. Lækninum fannst ekkert að, reyndar var það í Ameríku, þar sem hún fæddist. Hann rétti mér blað með upplýsingum um Munchausen heilkennið, sem lýsir sér þannig að foreldrar, oftast móðir, vill að eitthvað sé að barni sínu; segir Rut og bætir við að ferlið sé búið að vera langt, varðandi sjúkdóminn og greiningar og að fá rannsóknir í gegn. „Nýjasta nýtt í stöðunni er að það er ekkert vitað. Læknir þeirra hefur dregið tilbaka það sem áður var haldið. Við stöndum algjörlega úti á túni.“
Lítil friðhelgi á heimilinu Helena og Emilía eru mjög hreyfihamlaðar, halda ekki höfði og þurfa aðstoð við allt. „Svo eru þær tvær. Það eru svo fá fordæmi til að miða við. Kerfið miðar við foreldra með eitt langveikt barn. Það eru mjög fáir foreldrar á landinu sem eru með tvö börn sem eru svona mikið fötluð og veik. Svo vill maður auðvitað vita hvað er að, óvissan um hvað sé og hvað koma skal er virkilega erfið, við vitum ekkert hvernig þessi sjúkdómur þróast“ segir Rut, sem á greinilega erfitt með rifja árin upp. Foreldrar í þeirra stöðu, með fötluð og/eða langveik börn, þurfa á aðstoð að halda svo að þeir brenni ekki út. „Við fáum ákveðið marga klukkustundir á viku frá Reykjanesbæ, en eins og staðan er í dag dugar það skammt. Hér er starfsfólk inni á heimilinu og því mikilvægt að halda friðhelgi heimilisins en getur oft reynst erfitt. Þessu má lýsa dálítið eins og ‘haltu mér slepptu mér’ sambandi. Við höfum ekki val. Við þurfum á þessari aðstoð að halda svo að við getum verið foreldrar barna okkar. Svo erum við alltaf að fá nýtt og nýtt starfsfólk sem þarf að kynnast stelpunum og það þarf að þjálfa það upp. Oft kemur fyrir að við höfum ekkert starfsfólk. Það er gríðarlega erfitt og okkur nær ómögulegt að plana nokkuð. Einn dagur í einu og margar skyndiákvarðanir eru teknar.“ Ekki unnið úti í 10 ár Í tilfelli þeirra hjóna eru þau mikið í því að sinna dætrunum á nóttunni. „Það er ekki hægt að vaka á næturnar og vinna svo á daginn. Vera í raun alltaf á vakt. Þær eru í Öspinni í Njarðvíkurskóla. Helena fer þangað til að breyta um umhverfi, hún hefur lítið sem ekkert úthald. Emilía hefur meira úthald og er að læra á sinn hátt með tjáskiptum, fer í skynörvun og ýmislegt. Helena er með fylgdarmanneskju með sér og ef hún er veik þá getur fylgdarmanneskjan verið
Helena Sól og Emilía Ísabel eru mjög hreyfihamlaðar, halda ekki höfði og þurfa aðstoð við allt.
með henni heima líka. Fengum það í gegn fyrir skömmu,“ segir Rut. Hún og Chad byggðu húsið sitt sjálf, sem er í Innri-Njarðvík. „Það þurfti að vera nógu stórt og aðgengilegt. Eftir á að hyggja hefðum við reynt að hafa það meira þannig að við hefðum fleiri einkasvæði og sérstakt svæði fyrir starfsfólkið.“ Rut hefur ekki verið á vinnumarkaðnum síðan Helena fæddist og fyrstu árin var hún heima. Foreldrar langveikra barna eiga rétt á grunngreiðslum en Rut segir mjög strangt tekið á slíku. „Það þarf að koma með öll gögn; sjúkragögn frá læknum, greiningarstöð, um ástandið á barninu til að meta hvort við getum virkilega ekki unnið úti. Ef barnið fer í vistun eða skóla, þá er ekkert víst að greiðslur fáist.“ Chad starfar sem nuddari og er með Bsc gráðu í heilsuvísindum. Kjaftagangur og dómharka Á sama tíma og Helenu hefur hrakað mikið kom Stefán litli í heiminn. Hann ber öll einkenni þess að vera heilbrigður. „Við fylgdumst vel með honum í 3 mánuði og settum okkur í ákveðinn gír. Fólk var að kjafta úti í bæ og að dæma okkur heima hjá sér. Þá finnur maður vel hversu gott fólk við höfum í okkar innsta hring sem studdi okkur vel. Við nefnilega ákváðum að lifa ekki í hræðslu, hvort sem Stefán yrði heilbrigður eða ekki,“ segir Rut og bætir við það var aldrei vafi í þeirra huga, af eða á. „Það voru hinsvegar heilmiklar líkur á því að hann yrði heilbrigður. Við vitum öll að það eru alltaf möguleiki á að eitthvað
komi upp á, hvortsem það eru meðfæddir sjúkdómar eða eitthvað annað á lífsleiðinni. Við vitum ekki hvað bíður okkar. Sumir óskuðu mér ekki til hamingju þegar ég var ófrísk. Það stuðaði mig, í smá stund, en svo leiddi ég það hjá mér.“ Thor hafi líka verið alsæll og stoltur með að fá lítinn bróður. „Stefán gaf okkur tækifæri til að loka hringnum, ef þannig má að orði komast. Hann veitir okkur svo mikla hamingju. Það opnaðist eitthvað sem erfitt er að lýsa. Við erum ekki á sama stað í lífinu og flestir og til þess að skilja okkar ákvarðanir þarf fólk að hafa gengið í okkar sporum.“ Í sífelldu flogakasti og líðanin slæm Eins og fyrr segir ákváðu Rut og Chad að leita leiða erlendis til að dætrum þeirra gæti mögulega liðið betur. „Það var rosalega stórt skref. Meðferðin er ekki í boði hér á landi og Helena er í raun sífellt í flogi þótt það sjáist ekki alltaf utan á henni en þá sést það vel í heilalínuriti. Um það bil annan hvern dag fær hún status-flog þar sem hún verður öll blá og súrefnismettunin hrynur niður,“ segir Rut. Þau höfðu verið í sambandi við lækna og látið hana prófa öll lyf sem til eru hér á landi við flogum, sem eru lúmsk og Rut telur þau draga Helenu niður. „Hún á erfitt með halda uppi mettun á súrefni og líður oft alveg rosalega illa. Það er svo erfitt að horfa upp á það, erfiðast af öllu. Hún er kvalin og sýnir það. Hún svarar ekki lyfjum og var því tekin af öllum lyfjum. Hún sefur lítið
sem ekkert og læknarnir sögðust ekkert geta gert. Það þyrfti að einblína á að láta henni líða sem best. Það er erfitt fyrir foreldra að sætta sig við slík svör.“ Rut og Chad leituðu því upplýsinga og heyrðu af ákveðinni meðferð sem reynst hefur mjög vel við svona erfiðum flogum og komust að því að það var ekki hægt að fá meðferðina hér á landi. Þau ákváðu því að gera allt sem í þeirra valdi stóð í stað þess að gera ekki neitt. Ótrúleg viðbrögð við Facebook-færslu „Chad setti á Facebook að hann ætlaði að nudda eins marga og hann gæti til að safna fyrr þessari meðferð handa Helenu. Þá byrjaði boltinn að rúlla og fólk vildi leggja hönd á plóg. „Fólk gaf okkur ágóða af jógatímum, spinningtímum, fatamarkaði, íþróttanámskeiðum og sölu dagatala slökkviliðsins. Krakkarnir í skólanum hjá Helenu slepptu að kaupa jólagjafir á litlu jólunum og gáfu í sjóðinn, auk innborgana frá hinum og þessum. Við fundum fyrir svo svakalega miklum stuðningi og við erum þannig fólk að við eigum svo erfitt með að þiggja og að einhverjir væru að gera svona mikið fyrir okkur,“ segir Rut hrærð og bætir við að þau eigi ekki orð yfir þakklætið í garð alls þessa fólks. „Við höfum ekki stoppað síðan stelpurnar fæddust og höfum átt erfitt með að biðja fólk í kringum okkur um aðstoð. Við erum þó með gott fólk í kringum okkur. Fjölskylda og vinir hafa til dæmis stutt okkur mikið.“
Við settumst út í bíl, horfðum á hvort annað og fórum svo heim með veika barnið okkar. Engar upplýsingar eða leiðbeiningar
9
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 29. janúar 2015 Vantar betri stuðning fyrir slíka foreldra Spurð um eigin líðan segir Rut að hennar líðan tengist mikið líðan barnanna. „Við höfum dálítið sett okkar líðan til hliðar. Ég er endalaust að leita lausna svo að við fáum tíma og rými. Við erum kannski búin að eiga rosalega erfiða viku og svo koma lægðir og maður dettur niður. Það er mjög erfitt fyrir hjón eins og okkur því við erum ekki á sama stað á sama tíma. Það er svo erfitt að þurfa að leita til makans þegar manni líður illa og honum líður ekki eins þá vill maður ekki draga hann með sér niður. Við þurfum að leyfa okkur að falla aðeins niður og rísa svo upp aftur á okkar eigin forsendum. Viðurkenna rússíbanann.“ Rut vonar að stuðningur við fólk eins og þau verði betri í framtíðinni, alveg frá byrjun. Okkur var aldrei veitt áfallahjálp, allt var keyrt áfram og okkur hent út í djúpu laugina og við áttum bara að læra að bjarga okkur. Það vantar teymi sem heldur utan um svona foreldra. Félagið Umhyggja er til staðar og þar er sálfræðingur en það kom seinna. Þegar maður er nýr þá veit maður ekkert og skellurinn getur komið miklu seinna. Við erum líka að ala upp önnur börn og við þurfum að vera til staðar fyrir þau andlega líka,“ segir Rut. Miklar ráðstafanir fyrir ferðalagið Rut og fjölskylda er nú stödd á Flórída í tveggja mánaða ferð, þar sem meðferðin fyrir Helenu og Emelíu fer fram. Þau leigja hús og bíl og undirbúningur er búinn að vera mikill. „Bara það koma dætrunum fyrir í flugvélinni er búið að vera mikið vesen í einn og hálfan
mánuð. Við þurfum að getað tekið þær úr stólunum, lagt þær niður og haldið á þeim. Helena fær svo mörg köst og gargar hástöfum af sársauka og við verðum að geta gert ráðstafanir. Hún er með súrefni í vélinni og ælir miklu slími. Við erum með fimm ferðatöskur bara með mat, sprautur og annað sem fylgir systrunum,“ segir Rut, en báðar systurnar fá flogaköst. „Tilfinningin að fara út og gera mögulega eitthvað fyrir börnin er svo góð. Við vorum að þetta virki eitthvað svo að þær geti sofið. Við völdum Flórída því þær geta ekki verið úti í roki og kulda. Mamma og pabbi verða með líka og aðstoðarmanneskja. Við hefðum aldrei getað farið ein með börnin.“ „Farið heim og faðmið fjölskylduna“ Rut segir marga fylgjast með og spurt um þessa aðferð eftir að þau ákváðu að láta á hana reyna. „Við erum dálítið að skrá þetta allt saman í leiðinni; hvað kemur út úr þessu. Svo spyrjum við okkur, ef þetta gengur vel: hvað gerum við þá?“ Hún segist eiga fáa en mjög góða vini. Sumir hafi farið og nýtt fólk komið inn í líf sitt sem hafi viljað koma. „Þetta er sterkt, flott og gott fólk. Við höfum lært að meta litlu hlutina í lífinu. Við gerum okkur grein fyrir þvi að fólk er statt á mismunandi stöðum í sínu lífi og sér hlutuna út frá sjálfu sér en dægurþras í þjóðfélaginu skiptir okkur engu máli. Við erum kannski búin að vera með barnið okkar nær dauða en lífi á sjúkrahúsi og skiljum ekki allt fátið í umræðunni. Það er ekkert verra en að sjá barnið sitt þjást og geta ekkert gert. Þá viljum við bara helst segja við fólk að fara heim að faðma fjölskylduna,“ segir Rut að lokum.
Chad ásamt börnum sínum fjórum.
SKATTAMÁL
Fróðleiksfundur í Reykjanesbæ Mið. 4. feb. | kl. 9:00 | Krossmói 4
Rut og Helena Sól.
Fjallað verður um breytingar á lögum um tekjuskatt og virðisaukaskatt sem gerðar voru á síðasta ári. Sérstök athygli er vakin á breytingum á lögum um virðisaukaskatt sem hafa mikil áhrif á fyrirtæki í ferðaþjónustu. Einnig verður fjallað um skattlagningu einstaklinga sem stunda atvinnu erlendis en eru búsettir á Íslandi. Að fundi loknum gefst viðskipta vinum tækifæri að ræða við sér fræðinga KPMG í skattamálum og fara þar yfir þau skatta tengdu málefni sem brenna á þeim án endurgjalds.
SKATTA- OG LÖGFRÆÐISVIÐ
Skattabæklingur 2015 Upplýsingar um skattamál einstaklinga og rekstraraðila 2014 / 2015 kpmg.is
Skráning fer fram á kpmg.is
Skattabæklingur 2015
Bræðurnir Thor og Stefán.
10
fimmtudagurinn 29. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Bílabúð Benna | Notaðir bílar
-fréttir
pósturu vf@vf.is
Lárus og Sigurður í sýningarsal Heklu á Fitjum í Njarðvík.
Notaðir á benni.is
Vel sótt bílasýning hjá Heklu -Bílasala á mikilli uppleið, segja þeir Lárus og Sigurður bílasalar hjá Heklu
Chevrolet Cruze LTZ Dísel / beinskiptur Ekinn: 39.000 km.
Skráningarár: 1/2013
Verð: 2.990.000 kr.
„Þetta var frábær bílasýning. Við vorum hér með 22 nýja bíla til sýnis og hingað komu um 300400 manns,“ sögðu þeir Lárus Magnússon og Sigurður Guðjónsson, bílasalar hjá Heklu í Reykjanesbæ. Meðal nýrra bíla sem sýndir voru og margir prófuðu var e-GOLF en það er rafmagnsbíll. Hann fer nærri 200 kílómetra á hleðslunni. Rafbíllinn kostar 4,6 millj. kr. Fjörutíu ára afmælisbíll GOLF var einnig til sýnis en þessi bílategund hefur lengi verið vinsæll. Þá vakti nýr Mishubishi Outlander jepplingur líka mikla athygli en þar er á ferðinni hybrid/bensínbíll. Sá bíll er í boði frá 5 millj. kr. sem þeir félagar sögðu að væri ákaflega hagstætt verð fyrir svo veglegan jeppling. Vinsælasti bíll Heklu er Skoda en hér á Suðurnesjum er stór hluti leigubílstjóra með slíkan bíl. Þá er Hekla með Volkswagen bíla og hinn heimsþekkta Audi sem er til
VW GOLF rafbíll.
í allt frá smábíl upp í mjög stóran glæsijeppa. Þeir félagar voru sammála um að margir minni og meðalstórir bílar væru á hagstæðu verði en það stafar m.a. af því að þeir menga minna og fara því í lægri gjaldaflokka. Þeir Lárus og Sigurður voru sammála um að bílasala væri á mikilli uppleið og bílafloti landans myndi yngjast á næstu árum. Hluti af
aukinni sölu má tengja auðveldara aðgengi að fjármagni en nú er hægt að fá allt að 80% lán. „Hekla leggur mikla áherslu á að veita góða þjónustu á Suðurnesjum í þessu umboði þar sem auk bílasölu er þjónustuverkstæði. Samtals eru sex starfsmenn sem sinna bílasölu og verkstæðinu. Við tökum vel á móti öllum og bjóðum mikið úrval nýrra bíla,“ sögðu þeir að lokum.
Chevrolet Captiva Dísel / sjálfskiptur Ekinn: 82.000 km.
Skráningarár: 2/2013
Verð: 3.990.000 kr.
HEILSUHORNIÐ Hressandi súpa fyrir ónæmiskerfið
Honda CRV Executive Bensín / sjálfskiptur Ekinn: 173.000 km.
Skráningarár: 4/2007
Verð: 2.390.000 kr.
Hyundai Santa Fe CRDI Dísel / sjálfskiptur Ekinn: 143.000 km.
Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330
Skráningarár: 8/2007
Verð: 2.590.000 kr.
Reykjavík Vagnhöfða 27 Sími: 590 2035
Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 10-14
Nú eru umgangspestarnar heldur betur farnar að láta á sér kræla og margir lasnir heima þessa dagana, ýmist með hálsbólgu, flensu eða kvef enda standa þessar sýkingar yfirleitt sem hæst á þessum árstíma. Fyrstu viðbrögð mín ef ég finn að ég er að byrja fá einkenni eru að tækla þetta strax með því að sjá til þess að líkaminn fái nóg af D-vítamíni, góðum omega fitusýrum, fjölvítamíni, auka skammt af C-vítamíni og sínki og góðum meltingagerlum (acidophilus). Þetta er grunnurinn minn fyrir sterku ónæmiskerfi en svo tek ég aukalega oreganó olíu í hylkjum og grape seed extract hylki 3x yfir daginn en hvoru tveggja hefur sýkladrepandi áhrif og er mjög gagnlegt til að fyrirbyggja öndunarfæraÁSDÍS sýkingar. Svo nota ég auðvitað kröftuga jurtablöndu sem húrrar vel upp ónæmiskerfið enda GRASALÆKNIR besta lyfið að mínu mati og getur dregið verulega úr einkennum og flýtt fyrir bata. Huga þarf vissulega vel að því hvernig maður nærir sig þegar maður er lasin og eru súpur mjög SKRIFAR góð leið til að næra okkur og frábær leið til að koma inn virkum efnum úr grænmetinu til að styðja enn frekar við kerfið okkar. Þessi súpa er rótsterk og rífur vel í og inniheldur m.a. shiitake lækningasveppinn (fæst í næstu matvörubúð) sem hefur mjög breiða virkni gegn mörgum vírusum og bakteríum. Súpan inniheldur þar að auki ýmis krydd sem hafa mikla virkni og gefa henni gott bragð. Ónæmisstyrkjandi súpa: 2 b gulrætur 1 b púrrulaukur 1 b sellerí 1 b laukur 4 hvítlauksrif 1 b steinselja ½ b shhitake sveppur ½ b fersk basilika 1 msk ólífu eða kókósolía 1 tsk sjávarsalt 1 tsk turmerik duft smá dass cayenne pipar eða engifer duft salt og pipar 8 b vatn
• Saxið grænmeti, hitið olíu í potti og bætið lauk og hvít lauk við. Steikið á miðlungs hita í 5 mín. • Bætið gulrótum og shiitake sveppum og steikið í aðrar 5 mín. • Bætið þar næst sellerí, púrrulauk, steinselju, basiliku, kryddi og vatni. • Hækkið hitann og látið suðu koma upp. Lækkið svo niður í miðlungshita og látið malla í 20 mín.
Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
www.grasalaeknir.is, www.facebook.com/grasalaeknir.is, www.instagram.com/asdisgrasa
11
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 29. janúar 2015
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
Um 700 á þorrablóti í Garði S
tærsta þorrablót Suðurnesja ár hvert er þorrablót Björgunarsveitarinnar Ægis og Knattspyrnufélagsins Víðis í Garði. Hátt í 700 manns tóku þátt í borðhaldi en þorramaturinn kemur frá Axel Jónssyni í Skólamat. Fjölbreytt skemmtidagskrá var á þorrablótinu og almennt stuð á mannskapnum eins og sést á meðfylgjandi myndum sem Hilmar Bragi tók á kvöldinu. Þorsteinn Guðmundsson leikari og skemmtikraftur var veislustjóri en meðal þeirra sem tróðu upp voru þeir Laddi, Bjarni Ara og þá lék Buffið fyrir dansi fram undir morgun. Víðisfilm frumsýndi þorraskaup og Hobbitar stjórnuðu fjöldasöng, svo eitthvað sé nefnt.
ALLSHERJAR ATKVÆÐAGREIÐSLA
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör stjórnar og trúnaðarráðs Verslunarmannafélags Suðurnesja fyrir starfsárið 2015 - 2016. Kosið er um 3 fulltrúa í stjórn og 3 til vara, 7 fulltrúa í trúnaðarráð og 7 til vara, 2 félagslega skoðunarmenn og 1 til vara. Framboðslistum sé skilað á skrifstofu Verslunarmannafélags Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14, Reykjanesbæ, eigi síðar en kl. 12:00, föstudaginn 6. febrúar 2015. Öðrum listum en lista stjórnar skulu fylgja meðmæli 50 fullgildra félagsmanna. Kjörstjórn
Kalka upplýsingar Jan n.k sjá: viðhengi og aulýsing í 32. Tbl VF
A t v in n a
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. óskar eftir að ráða til starfa vélfræðing eða vélstjóra í Kölku, brennslustöð fyrirtækisins. Unnið er á vöktum. Starfssvið felst m.a. í stjórnun á brennslulínu stöðvarinnar, viðhaldi og þrifum á vélbúnaði, tækjum o.fl. Umsækjendur þurfa að hafa góða samskiptahæfileika, geta unnið sjálfstætt og undir álagi. Umsækjendur þurfa að hafa góða tölvufærni og enskukunnáttu. Kalka er eina sorpbrennslustöðin sem starfrækt er hér á landi og var tekin í notkun árið 2004. Stöðin er tæknilega fullkomin og þar starfa um 20 manns. Upplýsingar veitir Ingþór Karlsson í síma 862-3505. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist til ingtor@kalka.is fyrir 16. febrúar 2015.
AÐALFUNDUR Verður haldinn fimmtudaginn 5. febrúar kl. 20:00 í Sjálfstæðishúsinu, Hólagötu 15, Njarðvík. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Gestur fundarins: Ásmundur Friðriksson, þingmaður. Stjórnin
Sjálfstæðisfélagið Njarðvíkingur
12
fimmtudagurinn 29. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-fs-ingur
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla
NÝTT
Forvarnir með næringu
vikunnar
Mæti ef boðið verður upp á pítsu Jóhannes Snorri Ásgeirsson er FS-ingur vikunnar. Hann segir að allir sem ganga ekki í 66° úlpu séu best klæddir og hann hræðist köngulær. Hvaðan ertu og aldur?
Opið alla daga fram á kvöld
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
STAPAFELL
www.bilarogpartar.is
Hafnargötu 50, Keflavík
Ég er 17 ára að verða 18 og er fæddur og uppalinn í Keflavík.
Hvað sástu síðast í bíó?
Áhugamál?
Hvað finnst þér vanta í mötuneytið?
Mötuneytið
Hjólabretti/Snjóbretti og sofa
Hobbit held ég. Pítsu.
Köngulær.
Hver er þinn helsti galli?
Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna?
Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér?
Steini Flame$$$ verður heimsfrægur fyrir vine-in sín.
Jórunnar Jónasdóttur,
Ég er alltaf þreyttur.
Instagram, Snapchat og Spotify.
Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS?
Fleiri valmöguleika á mat í mötuneytinu.
Víkurbraut 15, Keflavík,
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og krabbameinsgöngudeildar Landsspítalans fyrir einstaklega góða umönnun og hlýtt viðmót.
Jóna Björg Antonsdóttir, Guðrún Anna Antonsdóttir, Bogi Jón Antonsson, Anton Ellertsson, Guðmundur Karl Antonsson, og aðrir aðstandendur.
Sigurður Stefán
Helsti kostur FS?
Hvað hræðistu mest?
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Eftirlætis
Kvikmynd:
Lord Of The Rings.
Ellert Þórarinn Ólafsson, Natalja Krasnova, Ásdís Björk Guðmundsdóttir,
Hljómsveit/ tónlistarmaður:
Kennari:
Einar Valgeir. Fag í skólanum:
Travi$ Scott/ Partynextdoor.
Enska.
Sjónvarpsþættir:
The Community.
Leikari:
Ryan Gosling.
Hvaða frasa eða orð notar þú oftast?
Ándjóks.
Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?
Það er gott (mæti samt vanalega bara ef það er boðið uppá pítsu). Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?
Flugnám held ég.
Hver er best klædd/ur í FS?
Allir þeir sem ganga ekki í 66° úlpu.
Vefsíður:
Reddit. Flíkin:
Jogging buxur. Skyndibiti:
KFC.
Hvaða tónlist/lag fílarðu í laumi (gulity pleasure)?
Taylor Swift.
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Emil Ágústsson,
Melteigi 22, Keflavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu 22. janúar. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju, þriðjudaginn 3. febrúar kl. 13:00. Sigríður Jóhanns Óskarsdóttir, Ingileif Emilsdóttir, Anna María Emilsdóttir, Ægir Emilsson, Sigríður Þórunn Emilsdóttir, Valdimar Ágúst Emilsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Snorri Eyjólfsson, Árni Hannesson, Sóley Ragna Ragnarsdóttir,
FISKELDI
Stofnfiskur hf. óskar eftir ráða fiskeldisfræðing og/eða háskólamenntaðan einstakling í fiskifræði í fiskeldisstöð í Höfnum.
-ung
Ég er mjög hávær
Kamilla Birta Guðjónsdóttir er í 10. bekk í Holtaskóla. Íslenska er hennar leiðinlegasta fag og Instagram er uppáhalds appið. Hvað gerirðu eftir skóla?
Ég fer heim, borða, slaka aðeins á og fer svo í ræktina. Hver eru áhugamál þín?
Skóli, vinir, fjölskylda og ræktin. Uppáhalds fag í skólanum?
Í boði er spennandi starf við klak og eldi á hrognkelsum hjá fyrirtæki sem hefur á að skipa metnaðarfullt og samhent starfsfólk. Æskilegt er að viðkomandi búi á Suðurnesjum. Skrifleg umsókn ásamt ferilskrá skulu berast á netfangið solvi@stofnfiskur.is fyrir 10.febrúar 2015.
Stærfræði og Samfélagsfræði eru skemmtilegustu fögi. En leiðinlegasta?
Íslenska er leiðinlegast, Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það?
Khloe Kardashian, Drake eða Kendrick Lamar. Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?
Hvað er draumastarfið í framtíðinni?
Draumastarfið er ekki en ákveðið en það verður að vera skemmtilegt.
Hvað er uppáhalds appið þitt?
Uppáhálds appið er Instagram. Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum?
Fatarstílinn minn er kósý.
Hver er frægastur í símanum þínum?
Mamma.
Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt?
Emma Watson er merkilegust sem ég hef hitt. Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag?
Ég myndi örugglega fella einhverjum.
Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu?
Ég er mjög hávær.
Hvað er skemmtilegast við Holtarskóla?
Krakkarnir og sumir starfsmenn er það skemmtilegasta við skólann. Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best?
Awkward.
Að fitna ekki af því að borða óhollt.
RAUÐAKROSSBÚÐIN
Besta: Bíómynd?
Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ
Forrest Gump
Opnunartímar Fimmtudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Föstudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Fatnaður, skór og gjafavara
Breaking Bad, The Following,Orange Is The New Black, Faking It, Awkward, The Walking Dead, How I Met Your Mother, FriRauði krossinn á Suðurnesjum
Sjónvarpsþáttur?
ends, Keeping Up With The Kardashians og 2 Broke Girls
Drykkur? Kristall
Tónlistarmaður/Hljómsveit?
Leikari/Leikkona?
Kendrick Lamar, Drake, Kanye West,Ty dolla sign,Wiz Khalifa, Frank Ocean, J Cole, Tyler The Creator, Schooboy Q, Chance The Rapper, Big Sean, Beyonce og Childish Gambino. Matur?
Kj ö t s úp a , Lambalæri og jólamatur.
Ég á ekki uppáhálds leikara eða leikkonu. Fatabúð?
Urban outfitters, HM, Zumiez, Pacsun. Vefsíða? Facebook, Youtube, Netflix eru uppáhálds
13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 29. janúar 2015
-uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Ásabraut 4 fnr. 209-4611, Sandgerði, þingl. eig. Jóhann Örn Ingvason, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sýslumaðurinn á Blönduósi, miðvikudaginn 4. febrúar 2015 kl. 10:00. Fífumói 1d fnr. 209-3120, Njarðvík, þingl. eig. Emil Piotr Krzeminski, gerðarbeiðandi Fífumói 1d,húsfélag, miðvikudaginn 4. febrúar 2015 kl. 08:45. Heiðarhvammur 7 fnr. 208-8989, Keflavík, þingl. eig. Íbúðalánasjóður, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf, miðvikudaginn 4. febrúar 2015 kl. 10:45. Holtsgata 44, fnr. 209-4899, Sandgerði, þingl. eig. Stefán Jóhann Heiðarsson og Soffía Jóhannsdóttir Hauth, gerðarbeiðendur Sandgerðisbær, Sjóvá-Almennar tryggingar hf, Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Sýslumaðurinn á Blönduósi, miðvikudaginn 4. febrúar 2015 kl. 10:30. Hringbraut 90 fnr. 208-9352, Keflavík, þingl. eig. Ásta Vigdís Böðvarsdóttir og Kristján Vilhjálmsson, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf., Reykjanesbær og Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn 4. febrúar 2015 kl. 11:05. Kirkjubraut 7 fnr. 209-3774, Njarðvík, þingl. eig. JV Capital ehf, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf, miðvikudaginn 4. febrúar 2015 kl. 09:10.
Mýrargata 9 fnr. 226-0909, Vogum, þingl. eig. Elfa Björk Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf og Sveitarfélagið Vogar, miðvikudaginn 4. febrúar 2015 kl. 09:30. Strandgata 10 fnr. 209-5049, Sandgerði, þingl. eig. Hafliði Þórsson, gerðarbeiðendur BYR hf og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 4. febrúar 2015 kl. 10:20. Strandgata 10 fnr. 209-5050, Sandgerði, þingl. eig. Hafliði Þórsson, gerðarbeiðendur BYR hf og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 4. febrúar 2015 kl. 10:20. Strandgata 14 fnr. 209-5013, Sandgerði, þingl. eig. Fenrir Food ehf. og Melaberg ehf., gerðarbeiðendur Landsbankinn hf., Sandgerðisbær og Vátryggingafélag Íslands hf, miðvikudaginn 4. febrúar 2015 kl. 10:10. Vatnsnesvegur 34 fnr. 209-1157, Keflavík, þingl. eig. Ósk Bára Bjarnadóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Reykjanesbær, miðvikudaginn 4. febrúar 2015 kl. 11:15.
AF SKARTGRIPUM DAGANA 28. JAN. - 6. FEB.
KOMDU OG GERÐU GÓÐ KAUP. OPNUNARTÍMI: VIRKA DAGA KL. 13:00 - 18:00. LAUGARDAGA KL. 10:00 - 14:00. NJARÐVÍKURBRAUT 9 // SÍMI 421 1052 // GSM 823 4228.
ATVINNA
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum, 27. janúar 2015. Ásgeir Eiríksson, staðgengill sýslumanns.
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001 AUGLÝSING
TILLAGA AÐ BREYTINGU Á AÐALSKIPULAGI Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 og tillaga að deiliskipulagi vegna athafnasvæðis við Vogavík.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og deiliskipulag samkvæmt 41. gr. sömu laga. Breyting á aðalskipulagi felst í eftirfarandi: Mörk athafnasvæðis A-3 breytast og stækkar athafnasvæðið úr 11,0 ha í 13,0. Athafnasvæðið stækkar til norðausturs, norður fyrir aðkomuveg að svæðinu, inn á svæði sem er innan lóðar fiskeldisfyrirtækisins Stofnfisks sem er með starfsemi sína á svæðinu. Stækkun til norðurs er um 4,0 ha inn á svæði sem fyrir breytingu er skilgreint sem óbyggt svæði. Sú breyting er einnig gerð á mörkum afhafnasvæðis að ekki verður lengur gert ráð fyrir athafnasvæði meðfram ströndinni vestan við skilgreindan göngustíg í aðalskipulagi. Umrætt svæði er innan lóðar Stofnfisks en ekki gert ráð fyrir að fyrirtækið verði með starfsemi sína vestan göngustígsins og því verður svæðið skilgreint sem óbyggt svæði. Stærð þess svæðis sem breytist úr athafnasvæði í óbyggt svæði er um 2,0 ha. Samhliða breyttri landnotkun er mörkun hverfisverndarsvæðis H-1 einnig breytt við Vogavík. Hverfisvernd (H-1) er aflétt af því 4,0 ha svæði sem verður skilgreint sem athafnasvæði innan lóðar Stofnfisks, norðan aðkomuvegar, en hverfisvernd (H-1) verður skilgreind á því 2,0 ha svæði meðfram ströndinni sem breytist úr athafnasvæði í óbyggð svæði. Þá er legu göngustígs, sem gert er ráð fyrir á núverandi mörkum athafnasvæðis A-3 og hverfisverndarsvæðis H-1 breytt og mun stígurinn eftir breytingu liggja norðan stækkaðs athafnasvæðis. Áfram er gert ráð fyrir göngustíg meðfram ströndinni. Deiliskipulag, afmörkun og stærð: Svæðið sem deiliskipulagið nær til afmarkast af lóðamörkum lóða Stofnfisks innan athafnasvæðis A-3 og nær það út í sjó. Skipulagssvæðið er alls um 17 ha. að flatarmáli. Tillögurnar eru settar fram á uppdráttum og greinargerð og vísast til þeirra um nánari upplýsingar. Með tillögu að breytingu á aðalskipulagi er birt bréf Skipulagsstofnunar vegna athugasemdar Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja varðandi vatnsból sveitarfélagsins. Tillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með mánudeginum 26. janúar 2015 til og með mánudagsins 9. mars 2015 og hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en mánudaginn 9. mars 2015. Vogum, 26. janúar 2015. F.h. bæjarstjórnar, Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
TILBOÐSDAGAR Á SKARTI 15-30%
STÖRF HJÁ ICELANDAIR CARGO KEFLAVÍKURFLUGVELLI Icelandair Cargo óskar eftir að ráða til sín öfluga, sjálfstæða og hressa einstaklinga í sumarafleysingar á skrifstofu félagsins í Keflavík. Unnið er á tvískiptum dagvöktum og þrískiptum dag- og næturvöktum. Störfin felast í: • vinnslu útflutningsgagna, utanumhald á hleðslu, samskipti við viðskiptavini og aðrar deildir innan Icelandair Group • Tölvuinnsláttur, utanumhald á innflutningi, og önnur tilfallandi störf. Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg. Góð tölvu- og tungumálakunnátta skilyrði. Fólk með þekkingu og/eða reynslu úr flugheiminum er sérstaklega hvatt til að sækja um. Umsóknir óskast sendar til Ástu P. Hartmannsdóttur, stöðvarstjóra Icelandair Cargo í Keflavík, á netfangið: asta.p.hartmannsdottir@icelandaircargo.is Lágmarksaldur umsækjenda er 20 ár. Umsóknarfrestur er til 13. febrúar.
LEIKHÚSFERÐ
Félags eldri borgara verður 13. febrúar Farið verður í Borgarleikhúsið að sjá
„Beint í æð“
Sýningin hefst kl. 20:00. Miði og rúta kr. 5.500. Pantanir hjá Ólu Björk í símum 421 2972 og 898 2243, Björgu í símum 421 5709 og 865 9897, Ásthildi í síma 861 6770 og Guðrúnu í síma 659 0201 eftir kl. 13:00. Miðar seldir á Nesvöllum fimmtudaginn 5. febrúar. kl. 15:00 - 16:30. Tökum ekki kort ! Farið frá SBK kl. 18:30. Komið við í Hornbjargi, Nesvöllum, Grindavíkurtorgi og Vogatorgi. Leikhúsnefnd FEBS. Geymið auglýsinguna.
14
fimmtudagurinn 29. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir
pósturu eythor@vf.is
„Ætla ekki að ryðja neinum út“ XXBaldur Þórir Guðmundsson, sem býður sig fram til formanns knattspyrnudeildarinnar, vill aðskilja hlutverk formanns og framkvæmdastjóra og bjóða sig einungis til formennsku. „Það hefur verið leitað til mín núna og einnig fyrir fimm árum með að taka þetta að mér. Ég er alveg tilbúinn í þetta núna.“ Í tilkynningu sem birt var á stuðningsmannasíðu félagsins tekur Baldur fram að framboðið sé ekki með neinu móti atlaga að sitjandi stjórn og henni er hrósað fyrir vel unnin störf síðustu ár. „Við erum að tala um að fá smá endurnýjun í starfið og hafa áhrif til góðs og heilla fyrir félagið. Hugmyndin er að fjölga þeim sem taka þátt í þessu og við hvetjum gott fólk til að bjóða sig fram í stjórn. Við erum engin klíka sem ætlar að ná yfirráðum og stjórna fólki eftir okkar höfði. Við ætlum bara að fara þarna inn til að bjóða fram okkar krafta til viðbótar við þá sem fyrir eru.“ Aðspurður hvort að hann sé ekki of upptekinn maður fyrir þetta hlutverk segist Baldur eiga erfitt með að skorast undan. „Þetta er ættargalli að geta ekki sagt nei. Mér finnst svo mikill gunguháttur í að taka ekki áskorunum. Ég er ekki að fara þarna inn til að ryðja fólki út, heldur bæta mér við.“
Þorsteinn Magnússon formaður Knattspyrnudeildar Keflavíkur:
Biðlar til stuðningsmanna XX„Núverandi stjórn mun leggja af störfum einn daginn, en sá dagur er ekki runninn upp. Undirritaður hefur mikinn hug á að hefja sitt 20. stjórnarár hjá knattspyrnudeildinni og hef ég og mín fjölskylda lagt mikið á okkur fyrir Keflavík. Starf okkar síðustu ár hefur verið til fyrirmyndar. Rekstur og öll umgjörð er eins og best verður á kosið eftir þrotlausa vinnu. Sjáum við nú fram á bjarta framtíð og nú þegar það eru 3 mánuðir í mót, biðlar núverandi stjórn til sannra stuðningsmanna knattspyrnunnar í Keflavík að mæta á aðalfund deildarinnar og tryggja það að stöðugleiki haldi áfram og traustur grundvöllur fyrir knattspyrnuiðkun verði tryggður,“ segir Þorsteinn Magnússon formaður Knattspyrnudeildar Keflavíkur í grein sem birtist í heild á vf.is.
Þjálfari hjá besta liði Noregs Njarðvíkingurinn Fannar Berg þjálfar hjá unglingaliði Molde samhliða meistaranámi Njarðvíkingurinn Fannar Berg Gunnólfsson hefur hreiðrað um sig í norska bænum Molde, þar sem hann stundar nám í Sport Management í Molde University College og þjálfar unga knattspyrnumenn samhliða í akademíunni hjá norska meistaraliðinu Molde. F.K. Liðið er tvöfaldur meistari en Molde hefur verið mikið Íslendingalið í gegnum tíðina.
F
annar segir námið áhugavert og fjölbreytt en aðeins eru 20 nemendur eru teknir inn hverju sinni. Fannar, sem er þrítugur, hefur þjálfað yngri flokka í fótbolta allt frá því að hann var 17 ára gamall, bæði hjá Njarðvík, Grindavík, Reyni og síðar Fylki þar sem hann þjálfaði m.a. varaliðið og 2. flokk. Fannar hyggst leggja knattspyrnuþjálfun fyrir sig og því sótti hann í þetta spennandi nám. Hann þjálfar nú hjá svokölluðu G15 unglingalið Molde en þar má finna marga af efnilegri leikmönnum Noregs og fjölmarga unglingalandsliðsmenn. Njarðvíkingur og æskuvinur lék með Molde Kennari við skólann vissi af þjálfunarferli Fannars á Íslandi og hvatti hann til þess að sækja um starf hjá Molde. Fannar var á báðum áttum enda vildi hann einbeita sér að fullu að krefjandi náminu. Um leið og
Stolt Sea Farm er eitt af þróuðustu fiskeldisfyrirtækjum heims og hefur sérhæft sig í framleiðslu á hágæða sandhverfu, flúru og styrju. Stolt Sea Farm rekur fiskeldi í 6 löndum; Bandaríkjunum, Frakklandi, Noregi, Portúgal, Spáni og nú á Íslandi. Stolt Sea Farm á Íslandi hefur þegar hafið uppbyggingu á 2.000 tonna eldi á senegalflúru á Reykjanesinu og er uppbygging þess vel á veg komin. Áætlað er að uppbyggingu verði endanlega lokið árið 2018.
Rafvirki/Rafeindavirki
Stolt Sea Farm, alþjóðlegt, leiðandi fiskeldisfyrirtæki óskar að ráða rafvirkja/ rafeindavirkja fyrir fiskeldi fyrirtækisins á Reykjanesi. Fiskeldið verður stærst sinnar tegundar í heimi og er því um krefjandi og fljölbreytt framtíðarstarf að ræða. Starfssvið og ábyrgð: - Daglegt viðhald á húsnæði, vélum og rafbúnaði. Menntunar og hæfniskröfur: - Menntun í rafvirkjun eða rafeindavirkjun. - Skipulögð og öguð vinnubrögð. - Góð enskukunnátta.
Umsóknarfrestur er til 8. febrúar 2015. Umsókn og ferilskrá sendist á netfangið ssficeland@stolt.com merkt „Rafvirki/rafeindavirki“.
Electrician/electronics
Stolt Sea Farm, global, leading aquaculture company wishes to hire electricians / electronic aquaculture company in. The aquaculture company will be the largest of its kind in the world and is therefore challenging future work involved. Functions and responsibilities: - Daily maintenance of the premises, machinery and electrical equipment. Education and qualification requirements: - Education in electrical or electronics. - Organized and disciplined methodology. - Good knowledge of English.
Deadline for applications is 08 February 2015. Application and CV should be sent to the email address ssficeland@stolt.com marked “Electrician / electronics“.
hann fór að kanna aðstæður hjá Molde, hafði annað félag úr 2. deild í Noregi samband við hann og vildi fá hann til starfa. Boðið var gott og Fannar var á þeim buxunum að taka því. Eftir að hafa hugsað málið vandlega varð Molde svo fyrir valinu, en Fannar segist geta hugsað sér að þjálfa jafnvel í Englandi í framtíðinni og því er gott að hafa verið á mála hjá félagi eins og Molde. Alls eru um 20 þjálfarar á mála hjá félaginu sem sýnir kannski hversu stórt félagið er. Eins og áður segir er Molde mikið Íslendingalið. Æskuvinur Fannars úr Njarðvík, Óskar Örn Hauksson, var t.d. ungur að árum á mála hjá Molde. Fannar segir að vel sé talað um Íslendinga hjá félaginu og að menn muni vel eftir Óskari sem var hjá félaginu árið 2001. „Það hjálpar mér gífurlega að vera Íslendingur en gengi landsliðsins okkar hefur vakið athygli allra í fótboltaheiminum. Norðmenn vilja gjarnan heyra hvað Íslendingurinn hefur til málanna að leggja.“ Liðinu hefur gengið afar vel undanfarin ár og er þetta 25 þúsund manna bæjarfélag aðallega þekkt vegna knattspyrnu. „Ef það væri ekki fyrir fótboltann þá myndi helmingurinn af Noregi ekki vita neitt um Molde,“ segir Fannar, en öll aðstaða hjá félaginu er eins og best verður á kosið. Völlur félagsins tekur um 12.000 áhorfendur og æfingasvæðið er stórt og vel útbúið.
„Það var erfitt að halda andliti þegar ég var að tala við hann. Það var sérstakt að reyna að vera „professional“ án þess að láta aðdáun sína í ljós“
Erfitt að halda andliti í návist kóngsins Solksjær Manchester United goðsögnin Ole Gunnar Solskjær þjálfaði liðið fyrir tveimur árum, en hann hélt
eftir það til Cardiff þar sem hann stoppaði stutt við. Nú þjálfar hann unglingalið í nágrannabænum Kristiansund. Solskjær er goðsögn hjá Molde þar sem hann lék á yngri árum, en þar vann hann þrjá titla sem þjálfari áður en hann hélt aftur til Englands. „Hann er algjör kóngur í Molde. Hann er ekki ennþá búinn að fara að horfa á leik með liðinu, þar sem hann er hræddur um að setja pressu á þjálfarann,“ segir Fannar og hlær. Fannar hitti Solskjær þegar lið þeirra léku æfingaleik fyrir skömmu. „Það var erfitt að halda andliti þegar ég var að tala við hann. Það var sérstakt að reyna að vera „professional“ án þess að láta aðdáun sína í ljós,“ en Fannar er harður stuðningsmaður Manchester United og á margar góðar minningar tengdar Solskjær hjá United. „Ég man eftir öllum deginum þegar hann tryggði okkur sigurinn gegn Bayern árið 1999,“ en þar á Fannar við frægt mark Solskjær sem tryggði Manchester þrennuna frægu.
Sara sigraði á sterku móti í Boston XXEkkert lát er á velgengni Ragnheiðar Söru Sigmundsdóttur í crossfitinu en hún gerði sé lítið fyrir og sigraði á gríðarlega sterku móti í Boston í Bandaríkjunum um s.l. helgi. Það er aðeins vika frá því að Sara var sigurvegari á sterktu móti á Englandi og því ljóst að Njarðvíkingurinn er í feikna formi um þessar mundir. Mótið í Boston, sem kallast East Coast Championship, er eitt stekasta mót árins í crossfitinu, en meðal keppenda var m.a. fyrrum sigurvegari heimsleikanna, Samantha Briggs. Sara var stöðug alla keppnina og hafnaði ofarlega í öllum fjórum keppnisgreinum. Hún hafnaði í 11. sæti í fyrstu þraut, svo í fjórða og sjötta sæti. Bestum árangri náði hún í lokaþrautinni en þar hafnaði hún í öðru sæti.
Njarðvíkingar semja við efnilegan leikmann XXBakvörðurinn Ari Már Andrésson skrifaði undir nýjan tveggja ára samning á dögunum við 2. deildarlið Njarðvíkur í knattspyrnu. Ari Már, sem er uppalinn Njarðvíkingur, hefur leikið 30 leiki í deild og bikar með liðinu. Ari, sem er 19 ára, var hluti af U19 landsliði Íslands sem lék í Króatíu í undankeppni EM s.l. haust. Ari var aðeins 16 ára þegar hann hóf að leika með liðinu, en hann er næstyngsti leikmaður sem leikið hefur með meistaraflokki UMFN.
ÍSLENSKA SIA.IS STR 72657 01/15
Baldur býður sig fram til formanns Knattspyrnudeildar Keflavíkur:
BREYTINGAR Á SUÐURNESJUM 1. FEBRÚAR 2015 Þann 1. febrúar nk. munu breytingar á akstri á Suðurnesjum taka gildi. Breytingarnar eru unnar út frá ábendingum og beiðnum farþega, sveitarfélaga og akstursaðila. LEIÐ 55 FLE – Umferðarmiðstöðin • Nafninu á biðstöðinni Krossmóa breytt í Miðstöð. • Ferð kl. 9:23 frá Umferðarmiðstöð á virkum dögum færist til kl. 7:55 þannig að vagninn sé kominn kl. 9 í Keili til að koma til móts við nemendur og kennara þar. • Ferð kl. 5:11 frá Tjarnarhverfi til FLE á virkum dögum færist til kl. 5:05 vegna vaktaskipta í FLE sem eru kl. 5:30. • Öllum ferðum frá FLE (nema kl. 06:35) flýtt um 5 mínútur og í staðinn bætt við 5 mínútum í Miðstöð sem gefur honum meiri afgreiðslutíma þar. • Ferð kl. 7:42 frá FLE mun fara alla leið í Umferðarmiðstöð í stað þess að enda í Firði. • Biðstöðvunum Skógarbraut, Bogabraut og Njarðvíkurtorgi bætt við allar ferðir á leið 55 og biðstöðvunum Hringbraut/Melteigur, Hringbraut/Norðurtún og Hringbraut/Knattspyrnuvöllur bætt við í fyrstu ferð á morgnana til Reykjavíkur. Þessar breytingar hafa þegar tekið gildi en voru ekki komnar inn í tímatöflur og leiðavísi.
LEIÐ 88 Grindavík / Aðalbraut – Fjölbrautarskóli Suðurnesja / FS • Bætt við ferðum kl. 14:28 á föstudögum frá FS og 15:28 á fimmtudögum og föstudögum frá FS til að koma til móts við nemendur. • Ferð kl. 16:20 frá FS færist til kl. 16:28 alla virka daga til að koma til móts við nemendur. • Bætt við ferð kl. 14:55 á föstudögum frá Grindavík. • Ferð kl. 15:50 frá Grindavík færist til kl. 15:55 alla virka daga. • Í morgunferðinni frá Grindavík í FS mun vagninn stoppa aukalega hjá Lögreglustöðinni í Grindavík kl. 7:24 og halda síðan áfram eins og áður frá Grindavík–Aðalbraut kl. 7:25.
LEIÐ 89 Miðstöð – Íþróttamiðstöðin Sandgerði • Ferð kl. 7:07 frá Miðstöð færist til kl. 7:05 og ferðin kl. 7:31 frá Sandgerði færist til kl. 7:29 og stoppað verður aukalega í FS í þeirri ferð. • Ferð kl. 11:17 frá Miðstöð færist til kl. 12:17 og ferð kl. 11:41 frá Sandgerði færist til kl. 12:41.
ÍSLENSKA SIA.IS STR 72657 01/15
• Stoppistöðvarnar Vellir, Hringbraut/Norðurtún og Garðvangur í Garði bætast við. • Ferðir kl. 16:05 og 17:05 frá Miðstöð færast til kl. 16:03 og 17:03 og stoppað verður aukalega í FS í þeim ferðum.
Nýjustu og ferskustu upplýsingarnar er þó ávallt að finna á vef okkar,
strætó.is
vf.is
-mundi Var verið að herða sviða-sultarólina hjá Reykjanesbæ
FIMMTUDAGINN 29. JANÚAR • 4. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR
Ellert Grétarsson Fór í búð og keypti eyrnatappa (þótt ég eigi enga konu). Í pakkanum voru 20 stk eða 10 pör á 590 krónur. Í pakkanum var bæklingur, svakalegur doðrantur á hinum ýmsum tungumálum þar sem notkun og tilgangur með eyrnatöppum er útskýrður vel og vandlega. Velti því fyrir mér hvort hafi verið dýrara í framleiðslu, eyrnatapparnir eða bæklingurinn. Bára Skúladóttir Handboltaævintýrið hér í Qatar er úti við fórum á alla 6 leikina og skemmtum okkur konunglega líka fyrir og eftir leiki, alveg magnað að vera á svona leikjum og vera partur af svona litlum stuðningshóp veit ekki hvort þið funduð það heima í stofu en stemmningin var góð hjá okkur kynntumst fullt af góðu fólki. Strákarnir eru "okkar" og verða það alltaf. Áfram Ísland! Örn Steinar Hrósið í dag fær Bæjarstjórnin í Garðinum fyrir að búa til þessa frábæru aðstöðu í íþróttahúsinu fyrir okkur bæjarbúa og bjóða eldriborgurum og öryrkjum að æfa frítt
sem er bara frábært. Ég er búinn að æfa í mörgum stöðum og þessi aðstaða er bara æðisleg og virkilega vel að henni staðið. Ég skora á ykkur að koma og taka upp nýja siði og bæta lífsgæðin með betra formi. Magnea Smáradóttir Ég; kom bæjarstjórinn í heimsókn á leikskólann i dag ? Eva; já bara einn. Ég; það er bara einn bæjarstjóri. Eva; nei þessi með gráa hausinn kom ekki. Hahah veit ekki hvort það er Árni? Þórður Helgi Þórðarson Hvaða grín er þetta handboltasamband? 10 aðkeyptir leikmenn í heimaliðinu! Er einhver frá Katar í liðinu? Ekki nóg með allt ruglið fyrir keppni heldur toppar þetta allt. Vona að þetta IHF verði tekið á teppið eftir keppni. Þetta er bara grín. Mun Katar kaupa þýska landsliðið plús Messi og Ronaldo fyrir HM í fótbolta? Nei, það eru víst reglur í kampavínsklúbbnum.
– starfsmenn Nettó heyrðu undarleg hljóð úr pressugámi
Þ
egar til stóð að tæma pressugáminn hjá Nettó í Njarðvík um liðna heyrðu starfsmennirnir Radmila Medic og Sigmar Arndal Eyþórsson undarlegt hljóð úr gámnum. Til að taka af allan vafa ákváðu þau Radmila og Sigmar að opna gáminn og tína upp úr honum til að komast nær hljóðinu. Fljótlega kom hlaupandi á móti þeim bröndóttur kettlingur, um það bil 4 mánaða gamall, sem var frelsinu feginn. Kettlingurinn bar sig vel þrátt fyrir veruna í gámnum fyrir utan nokkrar skrámur á rófunni. Starfsmennirnir tveir hafa auglýst eftir eigandanum en enginn hefur gefið sig fram ennþá. Kettlingurinn er nú í góðu yfirlæti hjá starfsmanni Nettó. En hvernig kettlingurinn komst ofan í pressugáminn er enn hulin ráðgáta.
Pressugámurinn þar sem kettlingurinn fannst um síðustu helgi.
Kettlingurinn er um það bil 4 mánaða gamall og algjört krútt.
Sumarstarf á söluskrifstofu Icelandair í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Icelandair leitar að öflugum liðsmanni á söluskrifstofu félagsins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á krefjandi starfi í hröðu og síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi.
Starfssvið:
Hæfniskröfur:
n
Sala á flugfargjöldum, hótelgistingu og bílaleigubílum
n
Menntun í ferðafræðum – IATA-UFTAA próf er æskilegt
n
Upplýsingaveita, ráðgjöf og þjónusta
n
Þekking og reynsla af farseðlaútgáfu og Amadeus bókunarkerfi
n
Útgáfa ferðagagna
n
Góð tungumálakunnátta er nauðsynleg
n
Önnur tilfallandi verkefni sem fara fram í deildinni
n
Góð almenn tölvuþekking er nauðsynleg
Hér er um sumarstarf að ræða. Vaktafyrirkomulag er 2-2-3. Lögð er áhersla á vönduð, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfni til að vinna í hóp. Við leitum að áhugasömum einstaklingi sem sýnir frumkvæði, er jákvæður og viðmótsþýður og sem býr yfir ríkri þjónustulund.
+ Umsóknir ásamt ferilskrá óskast fylltar út á www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 7. febrúar 2015. Nánari upplýsingar veita: Ólafía G. Ólafsdóttir I olafia@icelandair.is Pétur Ómar Ágústsson I starf@icelandair.is
Radmila Medic og Sigmar Arndal Eyþórsson heyrðu undarlegt hljóð úr gámnum. Það reyndist koma frá bröndóttum kettlingi.
ÍSLENSK A SI A .IS ICE 72664 01/15
VIKAN Á VEFNUM
Kettlingi bjargað frá dauða í pressugámi