• fimmtudagurinn 23. febrúar 2017 • 8. tölublað • 38. árgangur
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Varpa hlutkesti vegna lóða í Reykjanesbæ ●●Gríðarlegur vöxtur í fasteignaviðskiptum ●●Tími til kominn að byggja Gríðarlegur uppgangur hefur verið í fasteignaviðskiptum á Suðurnesjum undanfarin þrjá ár. Nú virðist sem allt sé að seljast og tími til kominn að byggja upp. Slegist er um lausar lóðir og verktakar virðast ætla að byggja upp reiti sem hafa verið auðir árum saman. Talsvert er um það að fólk af höfuðborgarsvæðinu leiti á svæðinu eftir húsnæði. Fasteignasalar telja að hátindi í íbúðaverði verði fljótlega náð en markaðurinn er stöðugur á meðan byggingaframkvæmdir eru ekki komnar á fullt. Lántökur vegna húsnæðislána hafa aukist gríðarlega undanfarin þrjú ár en nú er að hægjast þar á. „Suðurnes eru mesti vaxtarsproti Íslands um
þessar mundir og fólk mun flykkjast hingað frá höfuðborginni,“ segir Páll Þorbjörnsson, eigandi Allt fasteigna. Ungt fólk er í miklum mæli að kaupa sér fasteignir en það stígur varlega til jarðar við að velja sér réttu lánin. „Frá 2014-15 hefur verið mikil aukning í því að fólk er að sækjast eftir húsnæðislánum. Við finnum mikið fyrir því að fólk á aldrinum 25 til 40 ára er að kaupa sér eignir og þá oft sína fyrstu eign,“ segir Sighvatur Ingi Gunnarsson, útibússtjóri Íslandsbanka í Reykjanesbæ. Í blaði vikunnar má sjá veglega umfjöllun um fasteignamarkaðinn á Suðurnesjum sem er að taka verulegan vaxtakipp.
Ljósmynda alla jörðina daglega með gervitunglum ●● ÍAV þjónustar 144 gervitungl og jarðstöð Eldflaug sem skotið var upp frá Indlandi um miðjan mánuðinn, og innihélt 103 gervitungl, hefur sterka tengingu við Reykjanesbæ. Grannt var fylgst með geimskotinu í Reykjanesbæ. Á Ásbrú er starfrækt jarðstöð af fyrirtækinu Planet Labs sem átti 88 af þeim gervitunglum sem voru í geimflauginni. Skotið gekk vel og eru öll þessi gervitungl komin á sporbaug um jörðu. Aldrei fyrr hafa fleiri gervitungl farið á loft í einu skoti og er þetta heimsmet í þeim efnum. Fyrir átti Planet Labs 56 gervitungl á sporbaug en með þessari viðbót eru þau komin í 144 og gera það að verkum að nú er hægt að ljósmynda alla jörðina með nokkurri nákvæmni daglega. Gervitunglin mynda keðju umhverfis jörðina og með snúningi sínum og snúningi jarðar ná þau að mynda alla jörðina einu sinni á sólarhring en hvert gervitungl nær að mynda landsvæði sem er 20 sinnum stærra en Ísland á hverjum sólarhring. Þessi gervitungl eru um það bil 90 mínútur að fara hringinn umhverfis jörðina og eru þau með 28 megapixla myndavél með öflugri linsu innanborðs. Þegar gervitunglin þjóta fram hjá Íslandi í um 500 kílómetra hæð senda þau frá sér myndirnar sem gervihnattamóttakararnir safna saman og senda áfram um netsambönd til höfuðstöðva Planet Labs í Bandaríkjunum.
Jarðstöðin á Ásbrú í Reykjanesbæ sem er í sambandi við 144 gervitungl sem mynda jörðina úr 500 km. hæð alla daga ársins. VF-mynd: Hilmar Bragi
Planet Labs er með móttökustöðvar á nokkrum stöðum víða um heim en stöðin hér á Ásbrú er sú stærsta hjá þeim og er hún nú þegar búin að hafa samskipti við öll nýju gervitunglin en hvert um sig er aðeins um 4 kíló og á stærð við venjulegt heimilisbrauð. Eftir að gervitunglunum var sleppt úr geimflauginni sá jarðstöðin á Ásbrú um að hlaða upp stýrikerfi á gervitunglin og raða þeim upp á himinhvolfið. ÍAV og Planet Labs eru með þjónustusamning og sér ÍAV um þjónustu og rekstur á jarðstöðinni sem er staðsett á Smiðjutröð 13-15 á Ásbrú. Í veturbyrjun árið 2015 hóf ÍAV framkvæmdir á Smiðjutröð 13 og 15 á Ásbrú fyrir Planet Labs. ÍAV sá um alla framkvæmdina sem gekk vel þrátt fyrir rysjótt veður. Sökklar fyrir diskana voru steyptir upp og lagnir
settar í jörðu. Fyrir um ári síðan komu svo diskarnir en á svæði Planet Labs eru sex gervihnattamóttakarar, fjórir þeirra eru veðurþolnir en tveir eru inni í stórum hvítum kúlum sem verja þá fyrir veðri. Þá eru á svæðinu nokkur önnur stefnuvirk loftnet og mannvirki með stjórnbúnaði. Jarðstöðinni er fjarstýrt frá Bandaríkjunum en rafvirkjar frá ÍAV sinna þó ýmissi þjónustu við búnaðinn á Ásbrú og eru með fjarstýrðar hendur á svæðinu, eins og þeir segja sjálfir. Fjallað er um jarðstöðina í Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld, fimmtudagskvöld klukkan 22:00 og aftur klukkan 22:00. Umfjöllunin er einnig á vef Víkurfrétta, vf.is, þar sem rætt er við Einar Ragnarsson, verkefnisstjóra hjá ÍAV um þetta áhugaverða verkefni.
Lóan er komin í slökkviliðið og karlavígið fallið! ■■Það tók næstum 104 ár að fella eitt þaulsetnasta karlavígið í Reykjanesbæ. Slökkvilið var stofnað í Keflavík árið 1913 og núna árið 2017 hefur fyrsta konan verið ráðin til starfa hjá Brunavörnum Suðurnesja sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður. Hún heitir Lóa Dís Másdóttir og starfaði síðast sem lögreglumaður hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
Lóa Dís er með menntun sem sjúkraflutningamaður og hefur undanfarið náð sér í menntun í slökkviliðsfræðum. Fyrsta vaktin hennar var á mánudagskvöldið en þá var meðfylgjandi mynd tekin af vaktinni hennar. Á myndinni með Lóu Dís eru þeir Bjarni Rúnar Rafnsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, Aron Rúnarsson slökkviliðsmaður og Herbert Eyjólfsson varðstjóri.
Hafnargötu 20, 230 Reykjanesbær S: 420 4000
FÍTON / SÍA
Guðlaugur H. Guðlaugsson lögg. fasteignasali einföld reiknivél á ebox.is
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
Halldór Magnússon lögg. fasteignasali Brynjar Guðlaugsson aðstm. fasteignasala Haraldur Freyr Guðmundsson aðstm. fasteignasala studlaberg@studlaberg.is
studlaberg.is
2
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 23. febrúar 2017
LAUS STÖRF LEIKSKÓLINN HEIÐARSEL Leikskólakennari Deildarstjóri einhverfudeildar HOLTASKÓLI UMHVERFISSVIÐ Flokkstjórar í Vinnuskóla - sumar UMHVERFISSVIÐ Yfirflokkstjóri í Vinnuskóla - sumar Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf eða beint á Ráðningavefinn https://reykjanesbaer.hcm.is/ storf/. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
VIÐBURÐIR LÉTTUR FÖSTUDAGUR Á NESVÖLLUM Dísurnar úr Vogunum koma og syngja á Léttum föstudegi 24. febrúar kl. 14:00. Allir hjartanlega velkomnir. NOTALEG SÖGUSTUND Í BÓKASAFNI REYKJANESBÆJAR Laugardaginn 25. febrúar verður Notaleg sögustund kl. 11:30. Halla Karen les og syngur úr Ávaxtakörfunni vinsælu. Tilboð í Ráðhúskaffi fyrir börn; 1/2 panini og safi eða kókómjólk á 500,- kr. Allir hjartanlega velkomnir. TÓMSTUNDASTARF ELDRI BORGARA Tómstundastarf eldri borgara minnir á Boccia æfingar á þriðjudögum og föstudögum kl. 10:30 í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Allir velkomnir.
AÐALFUNDUR Aðalfundur Rauða krossins á Suðurnesjum verður haldinn fimmtudaginn 2. mars 2017 kl: 20.00 að Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ. Dagskrá - Venjuleg aðalfundarstörf - Kaffiveitingar - Önnur mál Hvetjum alla Rauða kross félaga til að mæta og taka þátt í starfi deildarinnar Rauði kross Íslands á Suðurnesjum
SJÁLFSTÆÐISFÉLAGS KEFLAVÍKUR
AÐALFUNDUR Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Keflavíkur verður haldinn fimmtudaginn 2. mars nk. kl. 20:00 í félagsheimili félagsins að Hólagötu 15, Reykjanesbæ.
Johan D. Jónsson hlaut á fundinum þakkarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi árið 2017, fyrir vel unnin störf á löngum ferli. Vitanum og Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Suðurnesjum voru veitt Hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Suðurnesjum árið 2017.
Vel sóttur vetrarfundur Markaðsstofu Reykjaness ●●Johan D. Jónsson hlaut þakkarverðlaun ferðaþjónustunnar Johan D. Jónsson hlaut þakkarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi árið 2017 en þau voru afhent á vetrarfundi Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes Unesco Global Geopark í Hljómahöll í Reykjanesbæ sl. Fimmtudag. Vetrarfundurinn var mjög vel sóttur. Þarna mátti meðal annars finna fólk úr ferðabransanum, þingmenn og ráðamenn af Suðurnesjum. Johan fékk verðlaunin fyrir vel unnin störf á löngum ferli en ekki síður fyrir þau verkefni sem hann á eftir óunnin. „Eftir að hafa starfað hjá Flugleiðum í um 25 ár og á ferðaskrifstofum erlendis í um 2 ár fluttist hann til Keflavíkur og tók við starfi ferðamálafulltrúa Suðurnesja árið 1991. Hann gegndi þeirri stöðu til ársins 2003. Á tíma sínum þar vann hann að fyrsta Reykjaneskortinu sem ætlað var ferðamönnum. Það kom út 1992. Hann vann að fyrsta bæklingnum um Reykjanesið sem ætlaður var ferðamönnum á íslensku, ensku og þýsku með myndum og upplýsingum,“ sagði
Eggert Sólberg Jónsson verkefnastjóri hjá Reykjanes Geopark um Johan. Johan tók við formennsku í Ferðamálasamtökum Suðurnesja árið 2014 og sat þar í tvö ár. Hann hefur átt sæti í stjórnum Reykjanes Geopark, Markaðsstofu Reykjaness og Heklunnar – Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja. Hann er vinsæll leiðsögumaður og svæðisleiðsögumaður. Stjórnir Reykjanes UNESCO Global Geopark og Markaðsstofu Reykjaness veittu svo Vitanum og Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Suðurnesjum Hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Suðurnesjum árið 2017. Siglfirðingurinn Róbert Guðfinnsson hélt áhugaverða tölu á fundinum þar sem hann bar saman ferðaiðnaðinn við sjávarútveginn fyrir 30 árum. Þar mátti sjá margt keimlíkt og Róbert hafði margt áhugavert fram að færa. Róbert hefur náð góðum árangri í viðskiptum undanfarin ár. Hann fluttist fyrir skömmu aftur til heimabyggðar þar sem hann hefur meðal annars byggt hótel og veitingahús.
L eikarinn Gunnar Hansson var fundarstjóri en hliðarsjálf hans, Frímann Gunnarsson, stal algjörlega senunni undir lokin.
Erum að opna glæsilegt kaffihús á Hafnargötu 28, laugardaginn 25. febrúar Bjóðum upp á morgunmat og brunch alla daga. Allir velkomnir
Dagskrá fundarins: Venjuleg aðalfundarstörf. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Léttöl
Hafnargata 28 - Sími 555-1044 - Reykjanesbæ Sjálfstæðisfélag Keflavíkur
Opnunartími : Mánudaga - fimmtudaga frá 6:30 til 22:00. Föstudaga frá kl. 6:30 til 23:00. Laugardaga og sunnudaga frá kl. 8:00 - 23:00
TIL HAMINGJU KEFLAVÍK
BIKARMEISTARAR 2017
Bára Dröfn / karfan.is
Reykjanesbæ
markhönnun ehf
Saltkjöt og baunir…
s
5
á
lambasaltKjöt Blandað KR Kg áður: 898 Kr/KG
691
saltKjöt - SérValIð KR Kg
baunasúpu grunnur KaTla KR PK áður: 498 Kr/pK
1.998
saltKjöt- SíðuBITar KR Kg áður: 430 Kr/KG
198
448
-54%
Salkjötið fæst í Nettó -25%
lambalæri SnEITT
1.259
KR Kg áður: 1.798 Kr/KG
lambabógur KrYddlEGInn MEð SíTrónuSMJÖrI KR Kg áður: 1.489 Kr/KG
-30%
K
1
lamba rib eye MEð HVíTlauK oG róSMarIn KR Kg áður: 3.998 Kr/KG
1.348
2.999
-32% laxaafsKurður rEYKTur - 500 Gr. KR Kg áður: 1.490 Kr/KG
1.015
t S
-20% -30%
Kjötfars nýTT - 500 Gr. KR PK áður: 438 Kr/pK
298
Kjötfars - SalTað - 500 Gr. KR PK áður: 415 Kr/pK
282
-50% sharwoods sósur 3 TEGundIr - 420 Gr. KR PK áður: 399 Kr/pK
200
4 lambasVið - froSIð. KR Kg áður: 498 Kr/KG
á
398
-25% batchelors hrísgrjón 3 TEGundIr - 120 Gr. KR PK áður: 180 Kr/pK
135
Tilboðin gilda 23. – 26. febrúar 2017 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
c 3
2
á
…
súpuKjöt KR Kg áður: 998 Kr/KG
599
ÓDÝRt í
-40%
Verð sprengja
-30% gulrófur - íSlEnSKar KR Kg áður: 279 Kr/KG
188
KjúKlingabringur KR Kg áður: 2.098 Kr/KG
1.888
Girnileg pizza
Gulrófur og gulrætur á tilboði
gulrætur - íSlEnSKar - 500 Gr. KR PK áður: 329 Kr/pK
230
Kaffi d/E ClaSSIC roaST KR stK áður: 979 Kr/STK
881
tradizionale - pizza SalaME KR PK áður: 699 Kr/pK
berlínarbolla - 65 Gr. KR stK áður: 199 Kr/STK
499
139
-30%
Gott með kaffinu! cadburry brunch 3 TEGundIr - 6 STK. KR stK áður: 299 Kr/STK
224
-25%
lyons toffypops 240 Gr. KR PK áður: 289 Kr/pK
249
findus Kanelsnúðar 420 Gr. KR PK áður: 398 Kr/pK
358
findus Vínarbrauð 400 Gr. KR PK áður: 699 Kr/pK
629
www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hafnarfirði · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss
6
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 23. febrúar 2017
Gunnþóra Ólafsdóttir ólst upp í Keflavík en býr í dag í Garðabæ. Hún er mannvistarlandfræðingur og starfar hjá Rannsóknarmiðstöð ferðamála.
HOLLARA AÐ HREYFA SIG
ÚTI EN INNI
●●Gunnþóra Ólafsdóttir stýrði alþjóðlegri, þverfaglegri rannsókn sem sýnir að hollara er að hreyfa sig úti en inni ●●Fór í háskólanám 37 ára gömul og lauk doktorsprófi átta árum síðar
Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@vf.is
Gunnþóra Ólafsdóttir var alltaf á leiðinni í háskólanám að loknu stúdentsprófi um tvítugt en lét ekki verða af því fyrr en hún var orðin 37 ára. Hún lauk doktorsprófi í mannvistarlandfræði aðeins átta árum síðar og hefur undanfarin ár stýrt 14 manna alþjóðlegum hópi sem rannsakar áhrif náttúruupplifunar á heilsu og líðan. Meðal vísindamanna í hópnum var einn Nóbelsverðlaunahafi. Gunnþóra ólst upp í Keflavík og lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands og var staðráðin í að fara í háskólanám en vissi þó ekki nákvæmlega hvað hún vildi leggja fyrir sig. „Það eina sem ég vissi eftir stúdentsprófið var að ég ætlaði ekki í hagfræði, viðskiptafræði eða markaðsfræði eins og flestir skólafélagarnir úr Versló. Mér fannst þó óþægilegt að vita ekki hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði
stór. Þannig að ég skil vel ungt fólk í dag sem er í sömu sporum.“ Eftir stúdentspróf fór Gunnþóra að vinna sem flugfreyja og til stóð að hún færi í tungumálaskóla í Frakklandi. Þó gripu örlögin í taumana. Ekkert varð af Frakklandsferðinni, hún kynntist fyrrverandi eiginmanni sínum og þau byrjuðu að búa saman. Svo liðu árin. Þau hjónin eignuðust tvö yndisleg börn og byggðu saman upp fyrirtæki. Eftir að seinna barnið fæddist tók hún ákvörðun um að drífa sig í nám við fyrsta tækifæri. Hana langaði mest í læknisfræði eða lyfjafræði og aflaði sér upplýsinga um námið en komst að þeirri niðurstöðu að það yrði of krefjandi bæði fyrir sig og fjölskylduna. „Þá fannst mér meira en að segja það að fara í háskólanám. Ég var orðin 34 ára, farin að missa kjarkinn og var hrædd um að það yrði snúið að samræma fjölskyldulíf og nám. Ég var samt ekki sátt við að sleppa því að mennta mig, þurfti bara að hugsa smærra. Ég var lánsöm að njóta mikils stuðnings frá fjölskyldunni sem hvatti mig óspart.“
Arkimedesar-verðlaunin skiptu sköpum
Stuttu síðar sá hún auglýsingu frá Leiðsögumannaskóla Íslands og ákvað að sækja um. „Ég hafði alltaf kunnað vel við mig í ferðaþjónustunni og fannst þetta ágætis lending. Svo var þetta svo skemmtilegt. Við lærðum um náttúru Íslands og það hreinlega opnaðist fyrir mér ný sýn á landið, sérstaklega eftir að ég las jarðfræði og uppgötvaði hvað þetta er stórkostlega merkilegt land. Ég vann í tvö sumur við leiðsögn erlendra ferðamanna og fannst það frábær vinna. Á þeim tíma tók ég eftir hve vinsælir ferðamannastaðir voru farnir að láta á sjá vegna ágangs ferðamanna og mér fannst lítið gert til að sporna við þeirri þróun. Náttúran er jú auðlind íslenskrar ferðaþjónustu.“ Á þeim tíma var diplómanám í ferðamálafræði í HÍ auglýst en í náminu er meðal annars fjallað um þetta vandamál.“ Gunnþóra skráði sig í námið og fann um leið að þarna var hún á réttri leið. Eftir fyrstu önnina ákvað hún að fara í fullt nám og ljúka BS-námi
í landfræði með áherslu á ferðamál. Meðfram náminu var henni boðið að aðstoða við rannsóknina „Þolmörk ferðamennsku á Íslandi” og í lokaverkefni sínu greindi hún félagsleg þolmörk ferðamennsku bæði í Landmannalaugum og á Lónsöræfum og bar svæðin saman. Niðurstöður lokaverkefnisins þóttu áhugaverðar og gaf Umhverfisstofnun það út sem skýrslu. Gunnþóra hafði hugsað sér að fara í meistaranám að loknu BS-náminu en var þá hvött af einum kennara sinna til að senda inn tillögu að doktorsrannsókn í pottinn fyrir Arkímedesarverðlaunin sem Evrópusambandið veitir og kennd eru við gríska stærðog eðlisfræðinginn. Verðlaunin eru veglegur rannsóknastyrkur sem er hugsaður til að hvetja unga vísindamenn til að leggja fyrir sig rannsóknir á ákveðnu sviði og auðvelda þeim aðgengi að virtum háskólum og vísindamönnum. „Satt best að segja þá gerði ég mér engar vonir um að hljóta styrk en ákvað að sækja um því ég hafði engu að tapa.“ Skemmst er frá því að segja að Gunnþóra hlaut styrkinn árið
2003 og fékk í kjölfarið inngöngu í doktorsnám í mannvistarlandfræði við School of Geographical Sciences í Bristol háskóla á Englandi. „Ég var sú eina sem fékk styrkinn sem ekki hafði lokið meistaranámi og því var doktorsnámið þungt fyrir mig til að byrja með.“ Í doktorsnáminu vann Gunnþóra undir leiðsögn Paul Cloke, leiðandi fræðimanns á sviði ferðamennsku og samspili manns og náttúru, sem hafði þá nýlokið við rannsókn á náttúrutengdri ferðamennsku á Nýja-Sjálandi. „Það reyndist mikið gæfuspor fyrir „ungan“ rannsakanda að vinna undir hans stjórn. Ég kynntist glænýrri leið til að stunda landfræðilegar rannsóknir sem bauð upp á að beina athyglinni að núinu og greina hvað hefur áhrif á það. Þessi hugmyndafræði hefur haft mikla þýðingu fyrir rannsóknir í ferðamennsku sem hafa um nokkurt skeið verið gagnrýndar fyrir að gera lítið annað en að flokka áfangastaði, ferðamenn og þjónustu og finna athöfnum þeirra stað í stöðluðum líkönum. Í staðinn fyrir að hugsa ferðamennsku sem einn
fimmtudagur 23. febrúar 2017
7
VÍKURFRÉTTIR
„Mér fannst óþægilegt að vita ekki hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór“
Okkar elskaði sonur, unnusti, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir,
Lúðvík Jens Eggertsson, Flúðaseli 24, Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu, mánudaginn 13. febrúar. Útförin fer fram frá Seljakirkju, föstudaginn 24. febrúar kl. 13:00. Elísabet Lúðvíksdóttir, Sigrún Harpa Grétarsdóttir, Stefanía Bonnie Lúðvíksdóttir, Björgvin Þór Þórhallsson, Bára Erna Lúðvíksdóttir, Eggert Thorberg Sverrisson, Hermann Grétarsson, Þóra Björg Hafliðadóttir, Elísabet Lúðvíksdóttir, Arnþór Sigurðsson, Þórhallur Björgvin Björgvinsson, Friðrik Thor Hermannsson, Guðrún Eggertsdóttir, Jenný Olga Eggertsdóttir, Helga Ágústa Eggertsdóttir.
LEIKSTJÓRI ÞORSTEINN BACHMANN
NÆSTU SÝNINGAR: FÖSTUDAGINN 24.FEBRÚAR SUNNUDAGINN 26.FEBRÚAR FIMMTUDAGINN 2.MARS FÖSTUDAGINN 3.MARS SUNNUDAGINN 5.MARS Myndin er tekin á Snæfelli í einum af rannsóknarleiðangrum Gunnþóru. Ljósmynd/S.Vicary
af þeim mýmörgu háttum sem við högum lífi okkar og leggja sig í líma við að skilja út á hvað hún gengur á hverjum stað og á hverjum tíma.”
Ákvörðun um Íslandsferðir tengdar streitu
Doktorsverkefni Gunnþóru gekk út á að rannsaka aðdráttarafl náttúru Íslands sem áfangastaður ferðamanna og hlutverk náttúrunnar í upplifun og líðan ferðafólks. „Við vitum að náttúran er megin aðdráttarafl Íslands, en ekki hvað felst í því eða hvernig menn í raun og veru nýta og upplifa náttúruna meðan á ferðalaginu stendur. Mig langaði líka að komast einhverju nær um þessa dásamlegu líðan sem fólk tengir við náttúruna.“ Til að rannsaka þetta slóst hún í för með breskum ferðamönnum sem ferðuðust um Ísland bæði akandi og gangandi. „Tilgangur rannsóknarinnar var að fá fram nauðsynlegar upplýsingar um eðli náttúrutengdrar ferðamennsku til að undirbyggja ákvarðanatökur til dæmis við uppbyggingu ferðamannastaða, rekstur og vöktun þeirra og miðar að sjálfbærri þróun náttúrutendrar ferðaþjónustu.” Niðurstöðurnar voru í stuttu máli þær að ákvarðanir um að fara til Íslands tengdust líðaninni og þeim hugmyndum sem ímyndin af náttúru Íslands kallar fram í hugum fólks um hana. „Fólk var einfaldlega að leitast eftir að komast í betri líðan en þá sem einkenndi daglegt líf þeirra og fram komu ákveðnar vísbendingar um streitulosandi áhrif ferðalagsins og um hvaða aðstæður þurfa að vera á vettvangi til að fólki líði vel.“ Eftir að hafa varið doktorsritgerðina tók Gunnþóra að sér stundakennslu við Háskóla Íslands en fann fljótlega að meðfram henni myndi hún hafa sáralítinn tíma til að sinna rannsóknum. „Ég vildi gera aðra rann-
sókn sem væri sjálfstætt framhald af doktorsrannsókninni. Í höndunum var ég með vísbendingar um að aðdráttarafl náttúrunnar tengdist streitu í daglegu lífi og ég gat greint ákveðin hugsanamynstur hjá fólki í tengslum við vellíðan í náttúrunni sem mig langaði að rannsaka frekar. Þetta voru mikilvægar vísbendingar um annað og meira gildi náttúrutengdrar ferðamennsku og útivistar en skemmtun og frí, sér í lagi þegar maður hugsar til þess að streita er ein helsta heilsuvá 21. aldarinnar.“
Fékk nóbelsverðlaunahafa í hópinn sinn
Þegar Gunnþóra hafði tekið þá ákvörðun að rannsaka áhrif náttúrunnar á streitu sótti hún um styrki víða en fékk alltaf neitun. Hún ákvað að gefast ekki upp og fékk að lokum jákvætt svar frá rannsóknasjóði Lúxemborgar Fonds National de la Recherche Luxembourg og Háskólanum í Lúxemborg sem hýsti rannsóknina. Þá fóru hjólin að snúast. Ljóst var að til að mæla lífeðlisfræðileg áhrif náttúrunnar á streitu þurfti hún sérfræðinga á ýmsum sviðum í lið með sér. Félagsvísindin sem Gunnþóra hafði lagt stund á myndu ekki duga til ein og sér. Meðal þeirra sem slógust í hópinn var Elizabeth Blackburn sem hlaut Nóbelsverðlaun árið 2009 fyrir rannsóknir sínar í sameindalíffræði. „Það gekk ótrúlega vel að fá sérfræðinga í hópinn. Þetta eru alls 14 sérfræðingar frá 7 rannsóknastofnunum í 4 löndum; landfræðingar, sálfræðingar, líffræðingar, lífeðlisfræðingar, sjúkraþjálfari og læknir. Allt er þetta fólk með miklu meiri reynslu af rannsóknum en ég og það er ómetanlegt tækifæri fyrir mig að fá að vinna með þeim.“ Hópurinn rannsakaði hvort það hefði meiri streitulosandi áhrif að stunda hreyfingu í náttúrunni eða stunda
sömu hreyfingu í líkamsræktarstöð. Einnig var rannsakað í fyrsta skipti hvort regluleg náttúruupplifun samhliða hreyfingu geti lengt litningaendana (telomera). „Litningaendar hafa það hlutverk að verja erfðaefni litningana. Þeir styttast erfðafræðilega með aldri en þó ekki línulega eða með jöfnum hraða – streita getur til dæmis hraðað hrörnunarferlinu. Búið er að staðfesta tengsl á milli stuttra litningaenda og allra helstu sjúkdóma sem herja á Vestræn samfélög nútímans eins og hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki og flestra tegunda krabbameina. Eins eru staðfest tengsl á milli þessara sömu sjúkdóma og streitu. Streita er jafnframt þekktasti orsakavaldur fyrir ótímabæra styttingu litningaenda,“ segir Gunnþóra. Búið er að kynna hluta niðurstaðna rannsóknarinnar sem eru þær að náttúruupplifun samhliða reglulegri hreyfingu hafði jákvæðari/ betri áhrif á viðhald litningaenda en regluleg hreyfing án náttúruupplifunar. Niðurstöðurnar gefa til kynna að útivist og náttúruupplifun samhliða reglulegri hreyfingu getur haft forvarnargildi og er mikilvægur þáttur til að tryggja góða (lýð)heilsu með því að sporna við hrörnun litningaenda í blóðfrumum mannslíkamans og þannig minnka áhættu á sjúkdómum og auka lífslíkur. Gunnþóra slær þó þann varnagla að þessi rannsókn sé rétt byrjunin og að gera þurfi fleiri rannsóknir til að staðfesta niðurstöðurnar. „Við erum þar fyrir utan enn að vinna úr gögnunum og ætlum að kynna rannsóknina vel þegar henni lýkur. Vísindin þurfa að komast til skila til samfélagsins og ég vona að rannsóknir mínar eigi eftir að koma að gagni.“
UPPSELT
MIÐAPANTANIR Í SÍMA 421-2540
MIÐAVERÐ 3.000KR
FRUMLEIKHÚSIÐ, VESTURBRAUT 17 ALLAR SÝNINGAR HEFJAST KL.20.00 ÓSÓTTAR MIÐAPANTANIR SELDAR 15 MÍN FYRIR SÝNINGU AFGREIÐSLA MIÐA HEFST KLUKKUTÍMA FYRIR SÝNINGU HÖFUNDUR TÓNLISTAR ALAN MENKEN
BYGGT Á KVIKMYND EFTIR ROGER CORMAN, HANDRIT EFTIR CHARLES GRIFFITH.
HÖFUNDUR HANDRITS OG TÓNLISTARTEXTA HOWARD ASHMAN
SÖNGNÁMSKEIÐ FYRIR KÓRFÓLK Á SUÐURNESJUM Tónlistarskóli Reykjanesbæjar stendur fyrir 5 vikna námskeiði ætluðu kórfólki. Um er að ræða praktískt námskeið ætlað reyndu og lítt reyndu söngfólki, sem og þeim sem hafa ekki reynslu af að syngja í kór en langar til þess. Námskeiðið fer fram í Tónlistarskólanum, Hjallavegi 2, Reykjanesbæ. Athugið að nemendafjöldi verður mjög takmarkaður. Nánari lýsing á námskeiðinu er á vefsíðunni www.tonlistarskoli.reykjanesbaer.is Umsóknir liggja frammi á skrifstofu skólans, Hjallavegi 2. Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 2. mars n.k. Skólastjóri
8
VÍKURFRÉTTIR
RITSTJÓRNARPISTILL Páll Ketilsson
fimmtudagur 23. febrúar 2017
stemmning
Í DANSBYLTINGUNNI
FJÖR Á FASTEIGNAMARKAÐI „Þetta er búið að gerast ótrúlega hratt. Ég sé eiginlega mest eftir því að á þeim tíma sem var verið að skera niður, að þá höfum við ekki verið að skipuleggja á fullu fyrir svona tíð. Það átti enginn von á þessari svakalegu uppsveiflu sem við erum í núna. Þetta kemur allt í bylgjum en þetta virðist vera heilbrigðara núna,“ segir Guðlaugur Helgi Sigurjónsson sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjanesbæjar sem segir feikilegan uppgang í bæjarfélaginu og mikil ásókn sé í lausar lóðir. Fasteignasalar sem VF ræddi við eru á sama máli varðandi fasteignamarkaðinn, hann sé á fleygiferð. Þá sé fólk á höfuðborgarsvæðinu búið að uppgötva Suðurnesin sem hagstæðan kost, þar sé lægra fasteignaverð en mjög góð þjónusta á flestum sviðum, til dæmis skólum og leikskólum og síðast en ekki síst, hér sé næga atvinnu að hafa. Já, það kannast flestir við magnaðan uppgang á Suðurnesjum að undanförnu. Fjörið hófst fyrir um það bil þremur árum en mestu lætin hafa verið síðustu eitt til tvö ár. „Suðurnes eru mesti vaxtarsproti Íslands um þessar mundir og fólk mun flykkjast hingað frá höfuðborginni,“ segir fasteignasali um stöðuna. Og það er sama hvert litið er á Suðurnesjum, þetta er ekki bara staðan í Reykjanesbæ heldur er svipað uppi á teningnum í nágrannasveitarfélögunum. Fyrir tæpum tveimur árum funduðu fulltrúar Garðs og Sandgerðis með Íbúðalánasjóði vegna fjölda tómra íbúða í sveitarfélögunum. Í dag er búið í öllum íbúðum og skortur á eignum. Sama má segja um Reykjanesbæ og tómar íbúðir. Þær eru allar nýttar, þrátt fyrir fjölda eigna á Ásbrú sem hafa komið inn á leigumarkaðinn. Nú vilja margir reyna að kaupa í stað þess að leigja því leigumarkaðurinn hafi hækkað mikið og eins sé um þessar mundir lítið sem ekkert framboð af leiguhúsnæði. Bankarnir hafa fundið fyrir stöðunni en segja fasteignakaupendur skoða betur lánamálin en í góðærinu fyrir um áratug. Verktakar eru komnir í framkvæmdagír og framundan má búast við fjöri í þeim geira. Nýlega var úthlutað landssvæði á svokölluðu Nikkel-svæði í Reykjanesbæ en þar er gert ráð fyrir nærri 500 íbúðum. Þá eru aðilar að fara af stað með stór fjölbýlishús við Pósthússtræti í Reykjanesbæ, við gömlu sundhöllina og á fleiri stöðum. Svo eru að koma inn á markaðinn nærri 500 íbúðir á Ásbrú, flestar til leigu en einnig til sölu. Það má því búast við áframhaldandi fjöri á fasteignamarkaði. Fasteignasali segir Suðurnesin áfram heit: „Já, við erum flottasta stelpan á ballinu,“ sagði hann. Í blaði og sjónvarpsþætti vikunnar erum við með ítarlega umfjöllun um fasteignamarkaðinn.
■■Dansbyltingin Milljarður rís er haldin á vegum UN Women víða um heim. Á Suðurnesjum var dansað í Hljómahöllinni þar sem minning Birnu Brjánsdóttur var heiðruð. „Tökum höndum saman og berjumst gegn kynbundnu ofbeldi með væntumþykju, hlýju og dansi,“ segir í tilkynningu frá UN Women. Yfir milljarður karla, kvenna og barna komu saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem konur þurfa ekki að óttast ofbeldi og áreiti fyrir það eitt að vera konur. Í kjölfar hvarfs Birnu Brjánsdóttur hafa konur hér á landi stigið fram og lýst þeim veruleika sem þær búa við. Þeim ótta og óöryggi sem þær finna fyrir á götum úti og hvernig þær axla ábyrgð á mögulegu ofbeldi með því að forðast augnsamband, velja ákveðnar götur fram yfir aðrar, halda á lykli milli fingra sinna í annarri hendi og símanum í hinni með 112 á hraðvali er þær ferðast milli staða að kvöld- og næturlagi. Þessi veruleiki er þó síður en svo aðeins bundinn við Reykjavík. Ofbeldi eða ótti við að verða fyrir því er hluti af daglegu lífi kvenna víða um heim.
Íbúar höfðu glugga lokaða vegna mengunar ●●Reykur barst frá kísilveri vegna mannlegra mistaka Töluverðan reyk lagði frá kísilveri United Silicon á fimmtudagsmorgun í síðustu viku. Þá um morguninn höfðu 58 ábendingar um mengun borist Umhverfisstofnun. Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni er fáheyrt að svo mikill fjöldi ábendinga berist á svo stuttum tíma. Að sögn Kristleifs Andréssonar, stjórnanda umhverfis- og öryggismála hjá United Silicon, voru mannleg mistök þess valdandi að reykinn lagði frá verksmiðjunni. Of lítið hráefni var sett inn á ofn verksmiðjunnar aðfararnótt fimmtudagsins. Á fimmtudagsmorgunn var svo hráefni aftur sett inn á ofninn. „Hráefnið er rakt og kalt
þegar það er sett inn á ofninn og þarf að hitna hægt þannig að rakinn fari úr því. Þar sem of lítið hráefni var í ofninum var yfirborð þess heitara en við eðlilegar aðstæður. Afleiðingarnar voru þær að kalda og raka hráefnið hitnaði of hratt og brann að hluta þannig að mikill reykur myndaðist,“ sagði Kristleifur í samtali við Víkurfréttir. Afsog af ofninum hafði ekki undan og því slapp reykur út frá verksmiðjunni. Á samfélagsmiðlum sögðu nokkrir íbúar í nágrenni við kísilverið frá brunalykt sem lagði yfir byggðina á miðvikudagskvöld í síðustu viku. Sú lykt var vegna þess að slökkt hafði verið
á ofni verksmiðjunnar í tvo klukkutíma það kvöld, samkvæmt frétt á vef RÚV. Íbúi í Heiðarhverfi, sem Víkurfréttir ræddu við, segir lyktina hafa verið það sterka að ekki hafi verið hægt að vera lengi úti við. „Ég hugsaði með mér að það væri ekki séns að fara út að hlaupa í þessari mengun,“ sagði hann. Þá var annar íbúi í Reykjanesbæ sem ók um Reykjanesbraut fyrir ofan Reykjanesbæ um kvöldmatarleytið á miðvikudag og hélt að kviknað væri í bílnum, svo sterk var brunalyktin. Eftir athugun kom í ljós að ekkert var að bílnum en mikil brunalykt í loftinu. Þá fannst lyktin inni á heimili þó svo að gluggar væru lokaðir.
ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM
Hagnaður HS Veitna 736 milljónir kr.
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
SUÐURNES - REYK JAVÍK SÍMI: 845 0900 Frá tónleikum tónleikaraðarinnar Söngvaskáld á Suðurnesjum í Hljómahöll á dögunum. VF-mynd: Hilmar Bragi
HÚSFYLLIR Á SÖNGVASKÁLDUM FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, sími 421 0002, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www. vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
■■Húsfyllir var á tónleikum tónleikaraðarinnar Söngvaskáld á Suðurnesjum í Hljómahöll á dögunum þar sem flutt var tónlist Ingibjargar Þorbergs. Ingibjörg var heiðursgestur tónleikanna en hún fagnar 90 ára afmæli á árinu. Næstu tónleikar söngvaskálda munu fjalla um söngvarann og textaskáldið Þorstein Eggertsson þar sem fluttir verða þekktir slagarar eins og Gvendur á Eyrinni, Slappaðu af, Mamma grét og Söngur um lífið en lífsgleðin er einmitt einkennandi í textum Þorsteins sem stundum voru framleiddir á færibandi. Flytjendur eru Dagný Gísladóttir, Arnór B. Vilbergsson og Elmar Þór Hauksson. Tónleikarnir verða haldnir fimmtudaginn 2. mars og er miðasala í Hljómahöll og á hljomaholl.is.
Afhendingaröryggið er ófullnægjandi ■■„Þetta kemur sér afar illa fyrir okkur Suðurnesjamenn því afhendingaröryggið er ófullnægjandi með aðeins eina línu inn á svæðið. Einnig er vaxandi þörf fyrir meiri raforku til dæmis vegna mikillar uppbyggingar í kringum Leifsstöð og fjölgunar íbúa,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, í viðbrögðum við frétt þar sem greint er frá því að Hæstiréttur hafi staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness, þar sem fellt var úr gildi framkvæmdaleyfi sem sveitarfélagið Vogar gaf út til Landsnets vegna Suðurnesjalínu 2. Í málinu höfðu nokkrir einstaklingar og tvö fyrirtæki krafist þess að ógilt yrði ákvörðun sveitarfélagsins, frá því í mars 2015, um að veita Landsneti umrætt framkvæmdaleyfi. Greint er frá úrskurði Hæstaréttar á vef mbl.is.
■■Rekstur HS Veitna skilaði 736 milljónum króna á síðasta ári en það er örlítið minni hagnaður en var árið á undan en hann hljóðaði upp á 780 milljónir. EBITDA Veitna árið 2016 nam 1.899 milljónum samanborið við 1.896 milljón krónur árið áður. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem kynntur var á dögunum. Í tilkynningu frá HS Veitum kemur fram að minnkun hagnaðar um 44 milljónir króna skýrist með hækkun fjármagnsliða upp á 23 milljónir króna og hækkun annars rekstrarkostnaðar um 28 milljónir króna. Tekjur félagsins lækkuðu um 73 milljónir króna vegna minni vatnssölu. Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir HS Veitna hf. þann 2016 bókfærðar 20.704 milljónir króna. Eignir hækkuðu um 399 milljónir króna frá ársbyrjun. Fjárfestingar í veitukerfum 2016 námu 1.343 milljónum. Eigið fé HS Veitna í lok árs 2016 nam 8.760 milljónum króna. Veltufjárhlutfall var 2,52 í lok árs 2016 samanborið við 3,49 í árslok 2015. Hluthafar í HS Veitum eru fjórir og þar af áttu þrír yfir 10% hlut í félaginu. Reykjanesbær á 50,10%, HSV Eignarhaldsfélag 34,38% og Hafnarfjarðarbær 15,42%.
fimmtudagur 23. febrúar 2017
9
VÍKURFRÉTTIR
Fjör á fasteignamarkaði Mikill uppgangur er í fasteignaviðskiptum á Suðurnesjum. Slegist er um lausar lóðir og verktakar virðast vera í startholunum með að byggja upp reiti sem hafa verið auðir en í skipulagi árum saman. Talsvert er um það að fólk af höfuðborgarsvæðinu leiti á svæðinu eftir húsnæði. Fasteignasalar telja að hátindi í íbúðaverði verði fljótlega náð en markaðurinn er stöðugur á meðan byggingaframkvæmdir eru ekki komnar á fullt. Lántökur vegna húsnæðislána hafa aukist gríðarlega undanfarin þrjú ár en nú er að hægjast þar á. Ungt fólk er í miklum mæli að kaupa sér fasteignir og það stígur varlega til jarðar í að velja sér réttu lánin. Víkurfréttir fóru á stúfana og fóru um víðan völl á fasteignamarkaðinum á Suðurnesjum sem er í sjaldséðum blóma.
Nánast óþarfi að skrá litlar eignir á sölu ●●segir Páll Þorbjörnsson hjá Allt fasteignasölu „Suðurnes eru mesti vaxtarsproti Íslands um þessar mundir og fólk mun flykkjast hingað frá höfuðborginni,“ segir Páll Þorbjörnsson, eigandi og framkvæmdastjóri Allt fasteigna. Hann segir að tími hafi verið til kominn að markaðurinn á Suðurnesjum tæki við sér. „Markaðurinn hér á Suðurnesjum er að taka vaxtakipp sem hann átti inni. Stöðugleikinn í atvinnulífinu er orðinn frábær, hann var það ekki. Viðhorfið hjá fólkinu sem býr hérna er orðið annað. Þeir sem eru að sækja á þennan markað er fólk sem er að byrja að búa, erlent fólk og fólk sem er að koma úr Reykjavík sem vill meiri lífsgæði,“ segir Páll en Allt fasteignir hafa verið starfandi í Grindavík frá 2011
en komu til Reykjanesbæjar síðasta haust. Páll segir að byggð á svæðinu eigi eftir að vaxa og dafna en hann setur spurningamerki við hvenær hátindi í íbúðaverði verður náð. Ódýrar og minni eignir eru gríðarlega vinsælar að sögn Páls. „Eignir sem eru undir 25 milljónum, það er nánast óþarfi að skrá þær á sölu. Þær fara það fljótt.“ Fólk flyst líka talsvert hingað af höfuðborgarsvæðinu og er þá að sækjast í að stækka við sig. „Það er kannski að leita í að fara úr blokkaríbúð og fara þá í raðhús. Það þarf ekkert endilega að eiga skylt við að fólk sé að vinna á flugvellinum. Fólk er bara að finna sitt eigið athvarf. Fólk er líka jafnvel að minnka við sig. Þetta er engin ein týpa af fólki en við munum sjá það á næstu mánuðum að ungt fólk mun sækja hingað meira.“
Eftir langan tíma þar sem ekki hefur verið sóst eftir lóðum í Grindavík er markaðurinn þar loks að taka við sér að mati Páls. „Staðan í Grindavík er þannig að það eru varla eignir til sölu. Það eru til mjög ódýrar eignir og svo mjög dýrar eignir. Á dögunum var verið að úthluta lóðum en það er langt síðan það gerðist síðast. Nú er mikil vitundarvakning og verktakar af höfuðborgarsvæðinu að koma til þess að byggja í Grindavík,“ segir Páll. Hann telur að íbúafjölgun muni halda áfram en það sé spurning um hvort verðlagið haldi sér. „Við erum búin að fara ansi skart á síðustu tólf mánuðum. Hækkun á húsnæðisverði var í kringum 20 til 25% frá janúar til september 2016. Frá nóvember og til dagsins í dag er svo 10% hækkun þannig að hvort fermetraverð fari að halda jafnvægi er ótrúlega erfitt að segja.“
Fólk vandar sig við lántöku
●●segir Sighvatur Ingi Gunnarsson, útibússtjóri Íslandsbanka í Reykjanesbæ „Frá 2014-15 hefur verið mikil aukning í því að fólk er að sækjast eftir húsnæðislánum. Við finnum mikið fyrir því að fólk á aldrinum 25 til 40 ára er að kaupa sér eignir og þá oft sína fyrstu eign,“ segir Sighvatur Ingi Gunnarsson, útibússtjóri Íslandsbanka í Reykjanesbæ. Sá hópur er helmingur af þeim sem eru að taka lán til húsnæðiskaupa hjá bankanum. Fyrir nokkrum árum var sá hópur 20-30% af þeim sem tóku slík lán. Hvernig lán er fólk að taka í dag? „Eftir hrun jókst það mikið að fólk var að taka óverðtryggð lán. Við höfum verið að sjá það stigvaxandi að fólk er að færa sig aftur í verðtryggð lán. Um 55% eru að taka óverðtryggð lán í dag eða blöndu af hvoru tveggja, á meðan 45% eru að taka þessi verðtryggðu lán. Fólk er miklu meðvitaðra um hvernig lán það er að taka núna heldur en áður.“ Blönduð lán voru ekki í boði áður. Annað hvort var hægt að taka verðtryggt jafngreiðslulán til 25 eða 40 ára. Í dag eru valmöguleikarnir mun fleiri. „Við skynjum miklar hækkanir og sjáum að fermetraverð er að hækka mikið. Atvinnulíf hefur tekið við sér og kaupgetan hefur aukist. Það er nóg af atvinnu að hafa hérna og fólk vill koma hingað og setjast að. Við finnum það mikið að fólk er að koma hingað frá Reykjavík. Þannig eru margir viðskiptavinir bankans sem eru í viðskiptum við útibú í Reykjavík en eru að taka lán hérna hjá okkur.“ Sighvatur segir að það sé ekki lengra síðan en 2013 að ekki hafi verið mikil hreyfing í húsnæðislánum. Síðan þá
hafa lántökur tvöfaldast á milli ára til dagsins í dag. „Svo erum við að finna fyrir því núna að það er takmarkað framboð af húsnæði. Ég er því ekki að finna aukningu á lánum núna heldur er stöðugt ástand. Fólk er mikið að hugsa um hvernig lán það er að taka. Það er ekki að eltast við að taka alveg eins lán og nágranninn. Fólk er að spá í hvernig húsnæði og lán hentar því og er að vanda sig.“ Útborgun og skortur á eigin fé er oftast hindrunin fyrir ungt fólk að kaupa sína fyrstu eign. Sighvatur segir að sífellt fleiri nýti sér séreignarsparnað til þess að safna fyrir útborgun eða borga niður af lánum. „Mjög oft er eigið fé þröskuldur í kaupunum. Það hjálpar reyndar til hjá okkur að við erum að lána allt upp að 90% fyrir þá sem eru að kaupa sína fyrstu eign. Það er að nýtast mörgum vel.“
Endurfjármögnun lána að gera vart við sig
Sighvatur segir að það sé töluvert um það að fólk sé að láta endurfjármagna lánin sín. Slíkt hefur ekki sést síðan á árunum 2005-7. Þá var fólk oft að taka slík lán og nýta sér í eyðslu. Eitthvað er um það að fólk taki þannig lán til þess að viðhalda húsunum sínum. Sighvatur býst við stöðugum horfum og sér ekki fram á mikla aukningu í húsnæðislánum á næsta ári. Þó eru verktakar í startholunum og hyggja á framkvæmdir. „Við finnum fyrir því að hingað koma mikið af fyrirspurnum varðandi verktaka sem eru að fara að byggja hérna og vantar fjármögnun. Það eru mörg þannig verkefni í gangi í dag. Þannig að vonandi fer framboðið að aukast aftur og komast eitthvað jafnvægi á verðið.“
10
VÍKURFRÉTTIR
Feikilegur uppgangur í Reykjanesbæ ●●Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjanesbæjar, ● segir að bærinn sé afar vinsæll uppbyggingarstaður Mikil uppbygging mun eiga sér stað í Reykjanesbæ á næstu misse r u m . Mi k i l ás ók n er í lausar lóðir og til stendur að hefjast handa við að byggja upp svæði sem staðið hafa auð í lengri tíma. Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjanesbæjar, segir að Reykjanesbær sé afar vinsæll uppbyggingarstaður um þessar mundir. Á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs hefur 26 íbúðar- og iðnaðarhúsnæðislóðum verið úthlutað. „Það er feikilega mikill uppgangur. Þessi svæði sem hafa verið skipulögð, þar er allt að fara út.“ Þá er alltaf spurning um það hvort nægilegt vinnuafl fáist til þess að byggja upp þessi hverfi þar sem annars konar uppbygging á svæðinu tekur sinn toll. „Það virðist oft hafa verið sótt um til þess að næla sér í lóðir, en nú eru menn að fara af stað. Menn finna að eftirspurnin er rosalega mikil og þessar lóðir sem eru að fara út núna eru klárlega að fara að byggjast upp fljótlega,“ segir Guðlaugur og bætir því við að mikil vöntun sé á íbúðum fyrir þá sem eru að kaupa sína fyrstu eign og eru verktakar að reyna að svara því kalli. Víkurfréttir spurðu Guðlaug út í nokkur af þeim helstu svæðum sem til stendur að byggja upp á næstunni.
Innri Njarðvík
„Ég held að fólk sjái mikla möguleika í Innri-Njarðvík. Þar mun rísa skóli 2018-19. Við erum svo að fara að stækka Dalshverfi 2 til austurs. Þar verða klárlega minni einingar. Við höfum verið í vandræðum með að úthluta stærri einingum. Það er til skoðunar að breyta skipulagi þannig að einingar verði minnkaðar. Það virðist þó vera það mikill kraftur í umsóknum að okkur finnst ekki ástæða til þess strax.“ Á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs var sótt um rúmlega 40 lóðir og þurfti að varpa hlutkesti um nokkrar þeirra þar sem fleiri en einn aðili sóttist eftir sömu lóð. Það hefur ekki gerst síðan í síðasta góðæri.
„Núna erum við komin með yatzyteningana á loft eftir hvern einasta fund. Þeir aðilar sem eiga hlut að máli eru þá oftast viðstaddir og þetta er allt mjög gegnsætt.“
á næstunni miðað við eftirspurnina. Það var 7% fjölgun íbúa í bænum þegar við vorum að reikna með 1,6%. Þannig að það þarf að spýta í lófana.“
Ytri Njarðvík
Byggðar verða blokkareiningar á gamla fótboltavellinum í Njarðvík fyrir aftan Nesvelli. „Þar er verið að falla frá því að vera með bara íbúðir fyrir aldraða í þá blandaða byggð. Það verður því möguleiki fyrir yngra fólk að komast þar inn. Við gerum ráð fyrir því að það verði til pláss fyrir stækkun hjúkrunarheimilisins þegar að því kemur.“
Á Hrannargötu 11 og við hlið Sundhallarinnar er gert ráð fyrir fjórum einingum. Þar er gert ráð fyrir blokkum í fínni kantinum fyrir fólk 45 ára og eldra. Vatnsnesið sjálft veitir mikla möguleika að sögn Guðlaugs og þar eru sjávarlóðir sem eru þegar auðar. Þar hefur verið rætt um að reisa hótel á lóð Stóru milljónar sálugu. Skipulag leyfir slíka byggingu en ekki er víst að af verði.
Nikkel svæðið
Flugvellir
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars (BYGG) keypti Miðland ehf. sem á land í Hlíðahverfi í Reykjanesbæ, oft nefnt Nikkel svæðið, af Landsbankanum. BYGG átti hæsta tilboðið í félagið í opnu söluferli og greiddi 651 milljón kr. fyrir það. Á svæðinu er gert ráð fyrir byggingu 300 íbúða á um 20 hektara skipulagssvæði samkvæmt samþykktu deiliskipulagi og allt að 185 íbúðum til viðbótar ásamt atvinnuhúsnæði, á samtals um 14 hektara svæði samkvæmt gildandi aðalskipulagi. „Þetta er frábær staður milli Njarðvíkur og Keflavíkur. Þessir aðilar sem keyptu jörðina af Landsbankanum eru að fara þar af stað. Neðri hlutinn af því svæði er tilbúinn í skipulagi þannig að þeir geta hafist þar handa. Verkefnastaðan er þannig hjá þeim að þeir eru kannski ekki á hraðferð. Ég er búinn að funda tvisvar með þeim og við erum að fara að hittast aftur. Þarna verða að langstærstum hluta einbýlis-, par og raðhús. Fyrsti hlutinn er mjög lágreistur.“
Pósthússtræti
Þar stendur til að reisa blokkir í líkingu við þær sem eru þar fyrir. Guðlaugur segir að aðilar sem hyggjast byggja blokkir við hlið Íslandsbanka séu að fara af stað. Eins er búið að skipuleggja háhýsi við Víkurbraut þar sem gamla saltgeymslan er til húsa. „Mér finnst líklegt að þetta fari af stað
Vatnsnes
Flugvellir eru svæðið vestan við Iðavelli. Það svæði er nánast orðið fullt nú þegar eftir að það var sett í skipulag á síðasta ári. „Þarna verður flugtengd starfsemi. Þarna hafa bílaleigur sótt um lóðir að mestu til þess að vera með aðstöðu. Við höfum lagt áherslu á það að þarna verði byggt þannig að lóðirnar verði ekki fullar af bílum og notuð sem bílastæði. Það verður að leysa geymslu bíla með öðrum hætti. Við höfum verið að skoða það, til dæmis á Patterson svæðinu.“
Motorpark
Svæði við gatnamót Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar. Jarðvangur ehf., félag í eigu Bláa Lónsins, fékk úthlutað tæplega 51.000 fermetra lóð við Breiðasel 73. Þar á að hefja mikla uppbyggingu. „Þar sé ég fyrir mér ferðatengda starfsemi. Langstærstur hluti ferðamanna fer um Reykjanesbraut og heimsækir Bláa Lónið og þarna er gott tækifæri til þess að ná þeim þarna. Bjóstu við því að staðan yrði svona eins og hún er núna? „Þetta er búið að gerast ótrúlega hratt. Ég sé eiginlega mest eftir því að á þeim tíma sem var verið að skera niður, að þá höfum við ekki verið að skipuleggja á fullu fyrir svona tíð. Það átti enginn von á þessari svakalegu uppsveiflu sem við erum í núna. Þetta kemur allt í bylgjum en þetta virðist vera heilbrigðara núna,“ segir Guðlaugur.
fimmtudagur 23. febrúar 2017
Erum flottasta stelpan á ballinu ●●segir Sigurður Sigurbjörnsson fasteignasali á M2 Sigurður Sigurbjörnsson, fasteignasali hjá M2 í Hólmgarði í Keflavík, segir fasteignamarkaðinn á Suðurnesjum hafa tekið mikinn kipp á síðustu átta mánuðum. Sala fasteigna hafi vaxið hratt á þessum stutta tíma og verð farið hækkandi. Sigurður hefur starfað sem fasteignasali undanfarin ár og segir að árið 2011 hafi fasteignamarkaðurinn á Suðurnesjum náð botninum. Síðan þá hefur kúrfan verið á nokkuð jafnri uppleið en síðan tekið stökk síðustu átta mánuði eins og áður segir. „Það er auðveldara að selja eignir í dag en hins vegar er lítill lager af eignum. Fólk er tilbúnara að stækka við sig í dag því það hefur myndast eigið fé í eignunum og fólki líður þannig að það geti stækkað við sig og þurfi ekki að taka bankalán til að brúa það eigið fé sem hefur myndast,“ segir Sigurður. Hann segir talsvert um að ungt fólk sé að kaupa sínar fyrstu eignir núna og þar hafa bæði úrræði ríkisins og sparnaðarleiðir bankanna ráðið miklu eins og viðbótarlífeyrissparnaður. Sigurður segir allar tegundir eigna seljast í dag. Til dæmis sé ákveðinn hópur sem leiti eftir eignum sem kalli á mikið viðhald og séu að taka þessar eignir í gegn og lagfæra til að geta svo endurselt á hærra verði. Núna eru líkindi með árunum 2006-7 í fasteignasölu. Nú, eins og þá, fór framboð eigna að minnka, verðið að hækka og allt selst. „Það eru hins vegar allt aðrir drifkraftar að verki nú en þá.“ Er kominn tími á að það þurfi að byggja? „Já, ég held að það sé ekki spurning en menn eru svolítið seinir að fara af stað í það. Menn hafa verið hræddir og tvístígandi síðustu tvö ár hvort þeir hefðu átt að fara af stað og hvort verðin séu nógu góð. Nú eru þau orðin góð enda fer enginn af stað nema eitthvað sé út úr þessu að hafa.“ Hvernig eignum er fólk að sækjast eftir? Er verið að leita að minna húsnæði? „Það er rosalega misjafnt en fólk vill eignast íbúð. Þegar verðið er rosalega hátt þá er möguleikinn að taka minna
rými. Fólk sættir sig þá við minni einingu en að hún sé ný í stað þess að kaupa eitthvað sem er til dæmis 20 fermetrum stærra en gamalt og kallar á mikið viðhald.“ Aðspurður um leigumarkaðinn á Suðurnesjum segir Sigurður: „Við höfum fundið fyrir því undanfarið að fólk sem hefur verið á leigumarkaði er að leita eftir eignum til að kaupa því það finnur ekkert til leigu og vegna þess að biðlistar hjá leigufélögum eru mjög langir.“ Hvernig eignir þarf að byggja? „Það vantar 110 til 120 fermetra eignir með fjórum herbergjum. Það vantar svoleiðis eignir á markað. Þá vantar litlar eignir, jafnvel 40 til 50 fermetra eignir. Það hefur ekkert verið byggt af þessum eignum í lengri tíma síðan blokkirnar í Fífumóa og Heiðarholti voru byggðar. Það er aukinn markaður fyrir þessar íbúðastærðir. Það þurfa ekki allir sjónvarpshol og borðstofu. Við finnum að stærri fjölskyldur vilja fjögur herbergi í minna rými.“ Hver verður þróunin næstu árin? „Ég held að fasteignaverð haldi áfram að hækka næstu tvö til þrjú árin svo framarlega sem það breytist ekki mikið í samfélaginu. Við erum svolítið opin fyrir öðrum drifkröftum sem geta haft áhrif á þetta, sérstaklega ef margir fara af stað í byggingu húsnæðis og markaðurinn mettast af byggingamagni, sem ég hef ekki trú á að muni gerast, þá myndi þrýstingurinn minnka.“ Sigurður segist finna fyrir straumi fólks af höfuðborgarsvæðinu. Hann hafi lengi orðið var við það að fólk sé að þreifa fyrir sér á Suðurnesjum en það í auknum mæli núna. Hann segist finna að viðhorf þessa fólks sé jákvætt fyrir svæðinu, það tali um að það sé að koma í rólegra umhverfi og sé spennt fyrir þeirri breytingu sem það sé að setjast að á svæðinu. Hvað fasteignamarkaðinn á landinu varðar í dag, þá erum við á Suðurnesjum nokkuð heit? „Já, við erum flottasta stelpan á ballinu.“
fimmtudagur 23. febrúar 2017
11
VÍKURFRÉTTIR
Nægjusamara fólk vill minni íbúðir ●●segir Jón Ben Einarsson, skipulags- og byggingarfulltrúi í Garði og Sandgerði Mikil umskipti hafa orðið á fasteignamarkaði í Sveitarfélaginu Garði og Sandgerði á síðasta eina og hálfa árinu. Fyrir réttum 20 mánuðum áttu fulltrúar Garðs og Sandgerðis fund með íbúðalánasjóði vegna gríðarlegs fjölda eigna sjóðsins sem stóðu tómar og voru jafnvel að grotna niður. Í dag er búið í öllum þessum íbúðum og skortur á eignum. Jón Ben Einarsson er skipulags- og byggingarfulltrúi í Garði og Sandgerði. Hann hóf störf fyrir sveitarfélögin árið 2012 og hefur séð miklar breytingar á þeim tíma. „Fyrir 20 mánuðum síðan voru bæði Garður og Sandgerði að funda með Íbúðalánasjóði þar sem að hér stóðu í tugatali auðar íbúðir í eigu sjóðsins. Þetta voru 90 íbúðir í Sandgerði og rúmlega 70 íbúðir í Garði. Á báðum stöðum var einnig yfir tugur eigna í eigu banka. Þetta stóð allt autt og yfirgefið. Síðan hefur orðið ákveðin sprenging á svæðinu. Það sem hefur verið að gerast tvö til þrjú síðustu ár er að fólk hefur verið að kaupa þær eignir sem voru hálfkláraðar eftir hrun og ljúka við þær. Verktakar hafa verið að kaupa raðhúsalengjur og klára þessar eignir. Allar eignir Íbúðalánasjóðs og bankanna eru komnar út á markaðinn sem er í raun tómur í dag,“ segir Jón Ben. „Ef við einbeitum okkur að öllu Reykjanesinu þá má segja að það hafi varla verið byggt íbúðarhús frá árinu 2008 og þar til fyrir tveimur árum síðan. Þar spilar inn í að fasteignaverð var of lágt á svæðinu á móti byggingakostnaði þannig að það var enginn hvati fyrir byggingaverktaka að byggja nýtt íbúðarhúsnæði.“ Byggingafulltrúinn er að upplifa aðra hluti í dag. „Ég finn núna að það er að myndast mikill þrýstingur og það er mikið spurt um lóðir og það vantar orðið gríðarlega húsnæði á svæðinu. Það hefur orðið algjör bylting í þessa átt á nokkrum mánuðum. Á sama
tíma hefur verðið lagast þannig að það er orðið arðbærara að byggja en áður. Á sama tíma hafa þeir verktakar sem eru hér á Suðurnesjum haft mjög mikið að gera fyrir einkageirann og fyrir ferðaþjónustuaðila. Bara á svæðinu í kringum flugstöðina hafa á síðustu tveimur árum, í mínu umdæmi, verið í byggingu um 43.000 fermetrar af nýbyggingum.“ Jón Ben segir að það vanti verktaka til að sinna íbúðauppbyggingu á svæðinu. „Það vantar vinnuafl alls staðar. Þeir verktakar sem ég hef heyrt í, og þeir eru margir, þá vantar fólk og nú hef ég orðið var við það undanfarnar vikur að verktakar af höfuðborgarsvæðinu eru farnir að horfa til svæðisins. Það er erfitt að fá lóðir á höfuðborgarsvæðinu og þær eru dýrar. Á Suðurnesjum fást lóðir án þess að borga beint fyrir þær. Þú greiðir gatnagerðargjöld og byggingaleyfisgjöld. Hér er gríðarleg atvinnuuppbygging og vinnuafl vantar.“ Jón Ben segist vera farinn að hafa örlitlar áhyggjur af því hvernig við ætlum að leysa þau mál sem framundan eru í uppbyggingu á Suðurnesjum. „Þetta tekur allt tíma. Það þarf að skipuleggja hverfin og gera alla innviði klára áður en farið er í að byggja og svo tekur tíma að byggja.“ Í hvaða ferli er þetta í Garði og Sandgerði? „Á báðum stöðum eru til lóðir. Það eru hverfi hérna sem voru í uppbyggingu fyrir hrun. Í Garði var Teiga- og Klappahverfi nýskipulagt fyrir hrun. Þar var einn aðili farinn af stað fyrir hrun og það varð eina húsið í því hverfi þar sem skipulagðar höfðu verið 200 íbúðir. Það hverfi er tilbúið til að halda áfram uppbyggingu þar. Helmingurinn af lóðunum þar er fyrir einbýlishús en þar er lítil eftirspurn. Eftirspurnin hefur breyst og menn hafa meiri áhuga á raðhúsalóðum, parhúsalóðum og minni íbúðum, það er eins og markaðurinn í dag hafi ekki sömu einbýlishúsa- og bílskúrsdrauma og kynslóðirnar á undan.
Fólk er nægjusamara og vill ekki eyða öllum ævitekjunum í húsnæðisafborganir og því tengdu. Við þurfum því að taka upp það skipulag sem við vorum með klár og breyta um áherslur, þétta byggðina og gera minni einingar. Í Sandgerði eigum við eitthvað af lóðum í Lækjamóta- og Hólahverfi og ég held að þær verði fljótar að fara. Þar úthlutuðum við nær heilli götu á einu bretti um daginn og það eru orðnar daglegar fyrirspurnir um lóðir. Maður finnur þrýstinginn aukast svakalega.“ Hvaða fólk er að sækjast í að flytja í Garð og Sandgerði. Er þetta heimafólk eða aðkomufólk? „Mikið af þessu fólki kemur af höfuðborgarsvæðinu. Hluti er einnig að koma frá öðrum löndum til að sækja hingað vinnu. Það er töluvert um það að hér sé fólk að kaupa eignir sem hefur unnið í Garði og Sandgerði í nokkur ár. Hlutfall af íbúum af erlendum uppruna fer einnig stækkandi í byggðarlögunum“. Jón Ben segir að Garður og Sandgerði hafi upp á alla grunnþjónustu og gæði að bjóða sem öll sveitarfélög vilja geta boðið uppá. „Garður og Sandgerði eru svolítið ólík sveitarfélög. Í Garðinum er fólk að sækjast í að koma í bæ í sveit. Hér er notalegt og rólegt að vera. Það er mín tilfinning að það er hærra hlutfall af eldra fólki sem sækist í að setjast að í Garðinum en yngra í Sandgerði. Þegar fólk veltir fyrir sér að stækka fjölskylduna og þarf að stækka við sig húsnæði þá þarf ekki að velta dæminu lengi fyrir sér þegar það skoðar mun á húsnæðisverði á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu“. Hvernig sérðu fram á að þetta þróist í Garði og Sandgerði næstu ár? Höfum við fólk og verktaka til að byggja upp það sem hér þarf? „Nei, ég held að okkur vanti nokkuð uppá það núna. Ég get ekki séð að við höfum það sem þarf til að mæta því akkúrat núna en ég vona að úr rætist“.
Gott lóðaframboð og mikil hreyfing í Grindavík ●●segir Ármann Halldórsson, sviðstjóri skipulags- ● og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar „Það hefur verið mikil hreyfing hjá okkur. Bæði í úthlutun lóða og fyrirspurnum. Bara á þessu ári eru við búnir að úthluta undir fjögur raðhús og tvö lítil fjölbýlishús,“ segir Ármann Halldórsson, sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar.
„Við stöndum vel skipulagslega séð en það var farið í mikla skipulagsvinnu á fyrirhrunsárunum. Lóðaframboð hjá okkur er einnig mjög gott, við erum með tilbúnar lóðir fyrir rað-, par-, einbýli og fjölbýlishús. Bæði í nýja hverfinu okkar og svo erum við með lóðir í gamla bænum fyrir minni hús í eldri stíl og einnig nóg til af iðnaðarlóðum,“ segir Ármann.
Suðurnesjamagasín • fimmtudagskvöld kl. 20:00 og 22:00 • Hringbraut og vf.is LITLA HRYLLINGSBÚÐIN
FRUMSÝND Á FÖSTUDAGINN HORN S I N Ý S TINUM T Æ Þ Í
Fasteignafjörið á Suðurnesjum GEIMSTÖÐIN Á ÁSBRÚ!
SARA SIGMUNDS I SEINN HLUTI
slanir Koma í veraginn á föstud
498 kr. 2 stk.
179
798
ES Þeytirjómi 250 g
MS Rjómi 36%, 1 lítri
kr. 250 g
10 stk. Bollur
Bónus Rjómabollur 2 stk. vatnsdeigsrjómabollur
kr. 1 l
498 kr. 10 stk.
179 kr. 450 g
279 kr. 400 g
298 kr. pk.
Bónus Vatnsdeigsbollur 10 x 25 g ES Jarðarberjasulta 450 g
Kjarna Sultur 400 g, 3 tegundir
Van Diermen Bollur Með vanillukremi, frosnar, 20 stk.
259 kr. 280 g
298 kr. pk.
Verð gildir til og með 26. febrúar eða meðan birgðir endast
Bónus Glassúr 280 g, 3 tegundir
Van Diermen Bollur Með súkkulaði, frosnar, 10 stk.
. r
BITAR ÚR
BLANDAÐ 2. flokkur
FRAMHRYGG
579
139 kr. 500 g
1.998 kr. kg
Kjarnafæði Lambasaltkjöt 2. flokkur
Heima Gular baunir 500 g
Kjarnafæði Lambasaltkjöt Valið
kr. kg
SALTKJÖT OG BAUNIR... TÚKALL! BITARRYÚGRG FRAMH
45%
minna salt -sama bragð
1.198 kr. kg
1.998 kr. kg
1.098 kr. kg
998
SS Lambasaltkjöt Blandað
SS Lambasaltkjöt Valið
Íslandslamb Saltkjöt Saltskert, blandað
Íslandslamb Saltkjöt Blandað
679 kr. kg
279
Búrfells Lambasaltkjöt Blandað
Kjarnafæði Lambasíður Saltaðar
kr. kg
kr. kg
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00
14
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 23. febrúar 2017 Þorsteinn ásamt eiginkonu sinni Fjólu Ólafsdóttur.
Söngvaskáld á Suðurnesjum - Þorsteinn Eggertsson
HINN ÍSLENSKI
PRESLEY Hann er eitt afkastamesta textaskáld landsins, fyrrverandi rokkari og eitt sinn kallaður hinn íslenski Presley. Eftir hann liggja textar sem löngu eru orðnir þjóðareign og má þar nefna hina harðsnúnu Hönnu, Er ég kem heim í Búðardal, Slappaðu af og Gvend á Eyrinni svo aðeins örfáir séu taldir. Þegar aðrir textahöfundar voru að semja um sjómennsku og bændur samdi Þorsteinn um stelpur og fjör. Þorsteinn er umfjöllunarefni næstu tónleika í tónleikaröðinni Söngvaskáld á Suðurnesjum þar sem rakinn er tónlistarferill hans og æskuslóðirnar í Garði og Keflavík. Við fengum smá innsýn í þetta spennandi tímabil í íslenskri tónlistarsögu yfir kaffibolla og karamelluköku einn eftirmiðdag þar sem Þorsteinn sagði okkur frá uppvaxtarárunum á Suðurnesjum, síldarævintýrum, rokkinu og rólinu og ekki var verra að heyra sögurnar á bak við suma textana.
undir Nýja bíói, þá var Krossinn í Njarðvík og oft voru haldnar skemmtanir á loftinu á Aðalstöðinni. Þá opnaði klár ungur maður, Magnús Björnsson, skemmtistað á horni Hafnargötu og Faxabrautar sem nefndist Víkin þar sem hljómsveitir léku en þar var til að mynda fyrsta diskótekið á Norðurlöndunum.“
Tónlistaráhugann átti Þorsteinn sameiginlegan með móður sinni en þau
sungu oft saman og voru þau náin. „Þegar ég var 12 ára man ég að við heyrðum í útvarpinu eitthvað sem líktist rokki og róli, það var fjörugt lag með Rosemary Clooney: Come on A my house. Lagið heillaði okkur og við héldum að söngkonan væri svört en kom þá í ljós að söngkonan var ljóshærð pía,“ segir Þorsteinn og hlær. Tíminn á Laugarvatni var ógleymanlegur en í þá daga var ekkert fm útvarp, bara langbylgjan og þá heyrðist ekki alltaf hvað var verið að syngja. Sumir voru óskýrmæltir eins og Elvis og Little Richard og þá fór Þorsteinn að semja eigin texta. „Menn voru að syngja þetta á afbakaðri ensku af því að þeir heyrðu ekki textana of vel en þeir fluttu þá eins og páfagaukar svo útkoman var oft skrautleg.“ Eftir skólavistina á Laugarvatni flutti Þorsteinn til Keflavíkur og fór þar að syngja í Ungó með HJ kvartettinum en þar voru ávallt álíka margir söngvarar og hljóðfæraleikarar. Einar Júlíusson hafði þá sungið þar í nokkur ár og annar strákur, nýfluttur frá Akureyri, Engilbert Jensen. „Keflavík var merkilegur bær þótt hann væri ekki fjölmennur og þar var strax mikil músík. Ásbergsfjölskyldan rak skemmtistaðinn Bíókjallarann
Þessa mynd tók Jón bróðir Þorsteins af honum þegar þeir voru nýfluttir aftur til Keflavíkur árið 1959. Myndin er tekin í nýja húsinu áður en mublurnar komu.
Þorsteinn ásamt Hljómum við Penny Lane í Liverpool fyrir nokkrum árum.
„Ég er fæddur á Túngötu 10 í Keflavík 1942, nánar tiltekið inn í stofu á grænum dívani,” segir Þorsteinn glettinn en hann er sonur hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur húsmóður og matráðskonu frá Garðshorni í Keflavík og Eggerts Jónssonar sjómanns og síðar pípulagningamanns frá Kothúsum í Garði en Þorsteinn ólst upp í Garðinum frá tveggja til fimmtán ára aldurs.
Laugarvatn og Ingimar Eydal
Þorsteinn tók barnaskólapróf í Garðinum en eftir það lá leiðin til Laugarvatns. Þar byrjaði Þorsteinn að syngja og semja texta en herbergisfélagi hans var strákur frá Akureyri, Ingimar Eydal að nafni, en hann var fjórum árum eldri en Þorsteinn. „Ingimar spilaði á orgel og ég söng og vorum við fljótlega farnir að koma fram saman á skemmtunum. Af því að ég kom frá Keflavík, hinum vegin við girðinguna, þótti jafnaldra mínum Maroni Vilhjálmssyni, bróður Vilhjálms söngvara, við hæfi að gefa mér amerískt nafn og var ég því kallaður Stone Edison af skólafélögunum.“
Syngur með vinsælustu hljómsveit landsins
Þorsteinn tók þátt í samkeppni KK sextettsins sem var vinsælasta hljómsveit landsins á þeim tíma. „Ellý Vilhjálms hafði verið að syngja með þeim en nú átti að skipta út fyrir Óðin Valdimarsson frá Akureyri. Auglýst var eftir fólki og voru 10 söngvarar valdir út til þess að syngja á hljómleikum víðsvegar en þar voru fagnaðarlætin mæld - sá sem fékk mesta klappið og öskrin fékk starfið og það var ég,“ segir Þorsteinn en þá var hann 18 ára en hljómsveitin var sú vinsælasta á Íslandi á þeim tíma. Þorsteinn söng með hljómsveitinni í hálft ár en tók þá við söngnum af Einari Júlíussyni í hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar sem lék á Siglufirði þegar nóg var að gera í síldinni. „Þar var spilað þrjú til fimm kvöld
á viku í Sjálfstæðishúsinu. Það vor var svolítið spilað eftir veðri, það var spilað á hverju kvöldi á landlegum en ef það var mikið sólskin var sleppt úr kvöldi og kvöldi.“ Hljómsveitin bjó fyrir ofan samkomustaðinn og það var oft hvítvín í morgunmat, að sögn Þorsteins enda stutt að fara í ríkið. „Á þessum tíma voru menn að spila það sem var vinsælt en menn voru lítið að semja sjálfir, að undanskildum þekktum tónskáldum eins og Sigfúsi Halldórssyni en litla flugan hans gekk í heilt ár. Á dansleikjum tíðkaðist það að syngja á ensku en það þótti ekki við hæfi að syngja á ensku inn á hljómplötur, aukinheldur fóru menn ekki alltaf rétt með texta ef hann var á ensku. Texti á hljómplötum varð að vera á íslensku og þá fóru allir að semja um sveitina og sjóinn.“ Þegar Þorsteinn fór að semja fannst honum nóg komið af því - svo hann sleppti því alveg.
Hljómsveitin Beatnik stofnuð
Árið 1961 stofnaði Þorsteinn hljómsveitina Beatnik en honum þótti á þeim tíma rokkmúsíkin svo leiðinleg, ekkert nema amerísk væmin lög og sætir strákar. „Við spiluðum aðallega
eldgamalt svertingjarokk og þoldum ekki High school rock og Cliff Richard. Sveitin lék aðallega uppi á lofti í Víkinni og vann sér það meðal annars til frægðar að koma tvívegis fram í Kanasjónvarpinu. Þar lékum við lögin á ensku en ég kynnti þau á íslensku því ég vissi að það væru aðallega Íslendingar að horfa“, segir Þorsteinn og hlær. Þorsteinn fór utan til Kaupmannahafnar þar sem hann lærði myndlist í tvö ár. Þar hitti hann góðkunningja sinn, Hauk Morthens, sem hafði áður skrifað svo fallega um Þorstein og kallað hann hinn íslenska Elvis Presley. Haukur kom honum í samband við færeyskan umboðsmann sem útvegaði Þorsteini starf við að syngja. „Við spiluðum víða um Danmörku og þar á meðal á Hróarskeldu hátíðinni. Hún var ekki eins stór þá og seinna varð, enda ekki orðin að alþjóðlegri rokkhátíð fyrr en nokkrum árum seinna,“ segir Þorsteinn sem kannski var fyrstur Íslendinga til að koma fram á þeirri þekktu hátíð, svona í árdaga hennar í það minnsta.
Gvendur á Eyrinni slær í gegn
Þegar Þorsteinn kom heim frá námi var Bítlaæðið skollið á hér á landi.
Túngata 10, Þorsteinn fæddist í betri stofunni – inn af fremri glugganum sem snýr út að götunni.
fimmtudagur 23. febrúar 2017 Hann fór að vinna á auglýsingastofu í Reykjavík og þar varð til hljómsveitin Dátar. „Ég hafði gert tvo texta fyrir Þóri Baldursson og hann bað mig að semja texta fyrir Savana tríóið, Ást í meinum var því fyrsti textinn eftir mig sem kom út á hljómplötu. Svo gerði ég nokkra texta fyrir Dáta en það var bara einn sem var notaður, hinir þóttu of mikið bull og var Ólafur Gaukur fenginn til að semja hina textana. Þegar Dátar gerðu aðra plötu samdi Rúnar Gunnarsson söngvari og gítarleikari öll lögin og ég gerði textana, þar stóð upp úr Gvendur á eyrinni sem varð mjög vinsælt - svo vinsælt að Hljómar voru farnir að skjálfa,“ segir Þorsteinn glettinn. Dátar léku um allt land og Þorsteinn var sveitinni innan handar, ef þeir skyldu fara að semja músík. „Þá datt Þráni umboðsmanni í hug að kaupa alls konar kúlupenna og pappír og var ég fenginn til þess að skrifa bréf í óskalagaþættina í útvarpinu og biðja um lagið Gvendur á eyrinni. Við vorum þannig svolítið að svindla og ég skrifaði bréf sem sett voru í póst á Blönduósi, Sauðárkróki og svo framvegis. Allir þessir bréfritarar báðu að sjálfsögu um sama lagið. Textagerðinni fór fram hjá Þorsteini en hann lagði áherslu á að það væri auðvelt að syngja textana. Þá hjálpaði það, að mati Þorsteins, að textarnir voru ekki um sjómenn og bændur heldur mikið um stelpur og daglegt líf.
Hirðskáld Hljóma
15
VÍKURFRÉTTIR
„Þegar ég var búinn að semja á tvær plötur fyrir dáta fannst Gunnari Þórðarsyni ófært annað en að ég færi að semja fyrir Hljóma líka. Það gekk í mörg ár og varð ég nokkurs konar hirðskáld.“ Þorsteinn þekkti vel Gunnar og Rúnar Júlíusson en þeir Rúnar voru báðir úr gamla bænum. „Þegar ég spilaði með Beatniks lékum við á „restrasjónum“ á sunnudagseftirmiðdögum sem voru nokkurs konar miðdegisböll þar sem boðið var upp á kaffi og gos. Aldurstakmark var 16 ár en þar voru oft
Beatniks í Kanasjónvarpinu 1962. Söngkonan er Guðrún Frederiksen, systir pianóleikarans. Myndin er tekin einu og hálfu ári áður en til var hljómsveit sem hét The Beatles.
yngri krakkar að hlusta á tónlist. Þeir komu oft þangað Gunnar og Rúnar og Gunnar fór oft að tala við mig þótt hann væri hægur og svolítið feiminn, en hann var samt töffari. Rúnar talaði minna, hann var svo feiminn á þessum tíma.“ Þorsteinn segir að þótt kanaútvarpið hafi haft mikil áhrif þá hafi ávallt verið mikil tónlist á Suðurnesjum. „Það var öflugt félagslíf í bænum og þar voru sýndar revíur og sketsar og sungið á milli í Verkó og Ungó. Þarna voru Baldur Júlíusson pabbi Þóris og strákur sem ólst upp við Norðfjörðsgötuna og varð seinna þekkt tónskáld, Emil Thoroddsen sonur Þórðar Thoroddsen læknis. Það var ekkert sjónvarp og allar kvikmyndir ótextaðar og fólk var lítið að læra tungumál nema krakkar. Þess vegna komu til revíurnar þar sem verið var að atast út í stjórnmálamenn og þekkt fólk en marga textana átti Kristinn Pétursson eða Kristinn Reyr frá Grindavík.” En hvernig urðu textarnir til? „Svavar Gestsson, sem var einráður í plötuútgáfu, var strangur og vildi hafa útgefna texta á íslensku. Hann
var meira að segja strangur á textana, þeir áttu að hafa stuðla, höfuðstafi og endarím í takt við íslenska bragfræði. Maður þurfti að hafa það á hreinu og þótt ég hafi ekki gert það í Leyndarmáli, fyrsta textanum fyrir Dáta, þá var ég farinn að nota þetta í Gvendi á eyrinni og áfram þar til ég gerði textann við Slappaðu af en hann þurfti ég að gera hratt. Ég bað þá Jónas R. Jónsson í Flowers að skaffa mér viskíflösku til að geta gert þetta á stuttum tíma. Þegar ég var kominn niður í flöskuna var ég búinn að sleppa bragfræðinni og fór ég að þróa minn eigin stíl upp frá því.“ Textarnir urðu yfir 400 talsins sem gefnir voru út og samdi Þorsteinn fyrir fjölda tónlistarmanna og hljómsveitir. Má þar nefna Trúbrot, Brimkló, Lúdó og Stefán, Hauka og fleiri. Flestir kannast við lagið Þrjú tonn af sandi sem Haukar fluttu svo eftirminnilega en textinn er það sem Þorsteinn kallar hljóðlíkingu. Enda erfitt að skilja hvert þessi þrjú tonn af sandi eiga að fara, og hver þessi Andrés sé sem vill heilan skóg af mótatimbri? „Stundum gerði ég texta sem kallaðir eru hljóðlíkingar eins og í Þrjú
tonn af sandi. Mér fannst það skrítið þegar ég var strákur í sveit þegar menn voru farnir að súpa og syngja á hestamannamótum, grafalvarlegir og fóru vitlaust með textann, þeir höfðu þá lært hann svona og sungu gömlu ættjarðarlögin vitlaust, enda höfðu þeir aldrei lært þau rétt. Til dæmis Hamraborgin mín há og þögul, í staðin fyrir Hamraborgin rís há og fögur. Mér fannst skemmtilegt að búa til vitleysu og leyfa fólki að syngja vitlaust og taka sig ekki of alvarlega,“ segir Þorsteinn en þess má geta að Þorsteinn reyndi upphaflega að gera vandaðan texta við lag Presley Return to sender sem hét „Sendist til baka“. Hann var ekki hrifinn af textanum en sendi þá á Hauka. Hann féll ekki í kramið og þá sagði Þorsteinn: „Ég á annan sem mér finnst skemmtilegri“, hann sendi hann á þá og þeir gleyptu að sögn Þorsteins við honum.
Er ég kem heim í Búðardal samið á leið í bíó
Oft var djúpt á textunum og segir Þorsteinn að hann hafi þurft að hafa pressu til þess að klára þá. Gott dæmi um það er textinn við lag Gunnars
Gómsætur í næsta nágrenni
ÞRENNA 400
Bættu við gosi og snakki eða súkkulaði fyrir aðeins
Bátur vikunnar kr.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ:
LANDSBYGGÐIN:
NORÐLINGAHOLTI · GULLINBRÚ · ÁLFHEIMUM · SÆBRAUT · MJÓDD GARÐABÆ · MOSFELLSBÆ
BORGARNESI · AKRANESI · AKUREYRI · REYÐARFIRÐI · KEFLAVÍK · SELFOSSI · HELLU
AÐEINS
699
kr.
quiznos.is
Þú velur bát, vefju eða salat
Þórðarsonar Er ég kem heim í Búðardal. „Ég var að fara í bíó þegar Gunnar hringir í mig. Hann var þá hjá Rúnari á Skólaveginum og spurði hvort ég væri ekki búinn að gera textann. Ég var ekki byrjaður á honum og Gunnar segir: „Þú verður að gera þetta núna, við erum búnir að bíða í margar vikur og við erum að fara að taka lagið upp. Ég þekkti lagið og var oft búinn að hlusta á það á segulbandi og raula það, það var bara spurning um að fá hugmynd. Ég hafði verið í sveit fyrir vestan þar sem sér yfir til Búðardals og ég bjó mér til svolítinn dagdraum, fullt af stelpum að bíða eftir mér. Ég handskrifaði textann áður en ég fór í bíó og kom við á Skólaveginum á leiðinni og rétti Mæju. Svo kemur í ljós þegar platan kemur í dreifingu að það gleymdist að setja þverstrik í t-ið í heitinni og Ingibert söng þá heillinni og þannig hefur það verð síðan.“ Þorsteinn á textann við eitt af þeim lögum sem þekktust eru í flutningi Rúnars Júlíussonar í seinni tíð, en upphaflega lagið er kántríslagari. Textinn er í raun lýsandi fyrir skrif Þorsteins sem segist sjálfur alltaf líta á björtu hliðarnar: „Ef leiðist þér að hlust’ á nöldur um fátækt og púl, má alltaf graf ’ upp lukkusöngva sungna af Rúnari Júl. Og ef þú vilt fá skammt af ánægju, gleði og hamingjuvon, þá ættirðu að hlust’ á texta eftir hann Þorstein Eggertsson.“ Þorsteinn segist ekki sjá eftir neinum textum. „Nei sem betur fer ekki, þá eru þeir svo lélegir að þeir bara gleymast. Eitt árið þurfti ég að semja 70 texta og þá þarf maður alltaf að vera að koma með nýjar og nýjar hugmyndir, ef maður er að endurtaka sig lætur maður lítið á því bera.“ Tónleikarnir um Þorstein verða haldnir í Hljómahöll 2. mars klukkan 20:00.
16
VÍKURFRÉTTIR
ATVINNA Ný-Fiskur Sandgerði óskar eftir starfsfólki í fiskvinnslu. Framtíðar og sumarstörf í boði. Ný-Fiskur Sandgerði is hiring employees in our fish processing factory. Permanent employment or summer period available. Umsóknir skal senda á skrifstofa@nyfiskur.is eða koma á staðinn og fylla út umsókn.
NÝ - FISKUR
IceRentalCars ECO FRIENDLY CAR RENTAL
Bílaleigan IceRentalCars óskar eftir að ráða hressa og duglega einstaklinga í starf þjónustufulltrúa í starfsstöð fyrirtækisins í Reykjanesbæ.
fimmtudagur 23. febrúar 2017
Sparkað í Faðir vorið Nýr hljómur fyrir nýja öld Maddaman við sjávarkambinn, Keflavíkurkirkja, hefur nú hafið aðra öld í sögu sinni. Það var þrælmerkileg saga sem hún átti á liðinni öld allt frá upphafi þegar stórhuga fámenn byggð fiskimanna reisti sér veglega kirkju sem enn í dag er mikill sómi að. Færir heim sanninn um að vel skal vanda það sem lengi skal standa. Allt frá 1915 hefur Keflavíkurkirkja verið bæði andlegur og veraldlegur viti; sannkallað leiðarljós fyrir samfélagið sem hún þjónar, rétt eins og hún var í augum sjómannanna sem sigldu inn til hafnar í Keflavík. Þegar afi minn og nafni, sem sat um áratugaskeið í bæjarstjórn Keflavíkur og var bæjarstjóri um stutt skeið, sá fram á ævilokin í nóvember síðastliðnum átti hann í því sambandi aðeins eina ósk. Hún var sú að fara heim til Keflavíkur og vera kvaddur þar, það var Keflavíkurkirkja sem hann sá í stafni á leið sinni til friðarhafnar. Svo rótgróin er hún í vitund okkar og sálarlífi; bæði í gleði og sorg, við upphaf og endi lífs en fyrst og síðast er kirkjan alla daga vettvangur samstöðu og samkenndar okkar Keflvíkinga. Á síðustu árum hefur einstaklega vel tekist til við endurgerð kirkjunnar innandyra sem utan og hefur til dæmis stækkað kirkjuloft opnað á nýja möguleika eins og samstarf kórsins og lúðrasveitarinnar. En enn er verk að vinna, aðeins eitt verkefni eftir. Athygli mín var á því í tengslum við útför afa að sjálft kirkjuorgelið má muna fífil sinn fegurri. Nú er svo komið að sé óskað eftir því að sálmurinn „Faðir vor“ sé leikinn við athafnir þarf einn kórfélagi að taka að sér það verkefni að sparka í eina orgelpípuna til að bókstaflega berja í gegn réttan tón á tilteknum stað í laginu. Keflavík á tvær skrautfjaðrir sem seint verða af samfélaginu teknar og það er annars vegar að vera Bítlabær fyrr og nú, og hins vegar öflugur íþróttabær. Tónlistarlífið blómstar
ekki af sjálfu sér og rétt eins og í íþróttunum þarf góð aðstaða að vera til staðar. Aðstaða sem laðar að og heldur í fagfólk, aðstaða sem um leið elur upp fagfólk. Við höfum verið afar heppin með organistann okkar, Arnór Vilbergsson, sem er mikil lyftistöng í tónlistarlífinu og langt út fyrir veggi kirkjunnar og viðurkenndur sem slíkur enda er hann handhafi Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar 2016. Fjölmargt í tónlistarstarfi bæjarins á sér upptök við orgelpípurnar s.s. Með blik í auga á Ljósanótt, Söngvaskáld á Suðurnesjum og margt, margt fleira. Nú er svo komið að orgel kirkjunnar er verulega veikur hlekkur í blómlegu tónlistarlífi safnaðarins og keðjan er aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn. Fyrirhugað er að gera á orgelinu endurbætur þar sem nýjum röddum verður bætt við og skipt um mikilvæga hluta hljóðfærisins. Þetta mun ekki bara gefa því aukinn hljóm heldur nýtt líf, auk þess sem ásýnd söngloftsins mun breytast. Áætlaður kostnaður er um 26 milljónir króna en til samanburðar ber að hafa í huga að nýtt hljóðfæri kostar ekki undir 60 milljónum. Ég vil skora á alla velunnara Keflavíkurkirkju hvar sem þá er að finna; fólk, fyrirtæki og félagasamtök að leggja nú hönd á plóg til að við getum klárað verkefnið. Ekkert er svo smátt að það komi ekki að gagni. Ég vil sérstaklega skora á fermingarárganga sem koma saman til endurfunda með vorinu að hugsa til orgelnefndar kirkjunnar. Kennitala sjóðsins er 6801695789 og reikningsnúmerið 0121-15350005. Kannski bara að árgangur okkar sóknarprestsins, við sem litum fyrst dagsins ljós 1978 og fögnum 25 ára fermingarafmæli í vor, ríðum á vaðið? Með samstilltu átaki og góðum hug tekst þetta hratt og vel, koma svo Keflavík! Með kærri kveðju, Guðfinnur Sigurvinsson.
ÞJÓNUSTUFULLTRÚI STARFSLÝSING: • • • •
Afhending og móttaka bílaleigubíla Upplýsingagjöf Skráning bókanna Önnur tilfallandi störf
HÆFNISKRÖFUR: • • • • •
Góð tungumálakunnátta Góð tölvukunnátta Framúrskarandi þjónustulund Áreiðanleg og vönduð vinnubrögð Hreint sakavottorð
MÓTTÖKUFULLTRÚI STARFSLÝSING: • Afhending og móttaka bílaleigubíla • Ferjun viðskiptavina til og frá starfsstöð
HÆFNISKRÖFUR: • • • • •
Góð tungumálakunnátta Góð tölvukunnátta Framúrskarandi þjónustulund Áreiðanleg og vönduð vinnubrögð Hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar og umsókn um starfið er að finna á www.bernhard.is/storf www.icerentalcars.is • info@icerentalcars.is • Sími: 591 7900
Garðvangur í Garði. Þangað flytja 80 starfsmenn IGS síðar á árinu. VF-mynd: Hilmar Bragi
Flugafgreiðslufólk flytur á Garðvang Áttatíu erlendir starfsmenn Icelandair Ground Services (IGS), systurfyrirtækis Icelandair, munu setjast að í Garðinum síðar á þessu ári. Nú er unnið að endurbótum á Garðvangi, sem áður var hjúkrunarheimili, til að koma starfsfólkinu fyrir. Gunnar S. Olsen, framkvæmdastjóri IGS, staðfesti í samtali við Fréttablaðið á þriðjudag að unnið sé hörðum höndum við að gera húsnæðið tilbúið í tíma. „Þarna er töluvert af herbergjum sem verið er að laga fyrir okkur. Snyrta til, mála og gera vistlegt. Svo leigjum við þetta til okkar fólks sem kemur í vor,“ segir Gunnar og bætir við að mögulegt verði að leigja allt að 80 starfsmönnum, bæði sem einstaklingsher-
bergi og fyrir þá sem kjósa að deila herbergi. „Við erum að ráða erlenda starfsmenn í nánast hverja einustu deild hjá okkur; hlaðmenn, í ræstingar, innritun, flugeldhúsi og lagerstarfsmenn,“ segir Gunnar og bætir við að ráðnir hafa verið 220 erlendir starfsmenn sem bætast í stóran hóp Íslendinga sem verða örugglega um 400 talsins sem koma til starfa á sama tíma. IGS keypti nýverið þrjár blokkir á Ásbrú í Reykjanesbæ en það dugar ekki til og nú eru húsnæðismál erlends vinnuafls stöðugt úrlausnarefni fyrirtækja vegna fjölgunar starfa á Keflavíkurflugvelli. Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Nesfiskur keypti Garðvang nýverið og áframleigir bygginguna til IGS.
Vegatollur á Reykjanesbraut Jón Gunnarsson samgöngumálaráðherra sagði um daginn að það væri það eina rétta í stöðunni að taka upp vegatolla á þá vegi sem leiða út frá Reykjavík og er Reykjanesbrautin þar á meðal sem vænlegur kostur. Hann segir að vegatollar séu eina leiðin til að fjármagna viðhald og uppbyggingu vegakerfisins á íslandi. En höfum við Suðurnesjabúar ekki verið þarna áður hvað varðar tollgjald á Reykjanesbrautinni? Er þá ekki gott að rifja það aðeins upp? Reykjanesbrautin eða Keflavíkurvegurinn eins og hann var kallaður þá, var formlega opnaður 1965 og var þá eini þjóðvegurinn á Íslandi sem var með bundu slitlagi og innheimt tollgjald í tollskýli við Straumsvík. Tollgjaldið var í upphafi 200 krónur og þótti ansi hátt þá þeim tíma. En í lok ársins 1972, nánar tiltekið þann 31. desember, var innheimtu umferðargjalds hætt því búið var að borga upp það lán sem tekið var til framkvæmdanna (sbr. Vegminjasafnið, 1983). Sem sagt, við borguðum vegatoll í 7 ár til þess að borga upp þennan veg og komast til höfuðborgarinnar og nú er okkur boðið upp á að endurtaka leikinn. Vegatollar geta verið ágætir þar sem við á en nú þegar eru bifreiðaeigendur að greiða 33 milljarða í formi eldsneytisskatta á hverju ári en einungis 30% af þessum eldsneytisskatti og bifreiðagjöldum renna til viðhalds og uppbyggingu vegakerfisins á Íslandi. Ef við færum í samlíkingardæmi þá væri þetta eins og að þú keyptir þér árskort á líkamsræktarstöð en yrðir samt að greiða fyrir hvern þann tíma sem þú mætir í ræktina og tækin væru öll úr sér gengin með mikilli slysahættu. Væri nú ekki nær fyrir ráðamenn þessa lands að láta þá peninga sem eyrnamerktir eru til vegagerðar renna til vegagerðar og hætta þessari margsköttun á landsmenn og þá sérstaklega okkur sem þurfum nauðsynlega að nota þessa skattlögðu vegi sem Jón Gunnarson hefur valið til skattlagningar. Við hér á Suðurnesjum gerum okkur fyllilega grein fyrir því bagalega ástandi sem Reykjanesbrautin er í dag með sínum djúpu hjólförum, holum og ónógu viðhaldi. Þetta er jú mest keyrði vegurinn á Íslandi. Við sem samfélag höfum fengið að finna fyrir því að brautin er ókláruð hvað varðar tvöföldun í báðar áttir frá Fitjum að flugstöð og frá Hvassahrauni til Hafnarfjarðar því þar er slysatíðnin hæst. En það er einkennilegt að ráðherrann sjái aðeins þann möguleika að fara í aukna skattheimtu til þess að klára tvöföldun Reykjanesbrautar og eðlilegs viðhalds á henni. Þessir vegatollar eru viðbótar skattheimta sem mundi leggjast mest á námsmenn sem stunda framhalds- og háskólamenntun í Reykjavík, einnig á þá fjölmörgu sem fara til vinnu á höfuðborgarsvæðinu. Því spyr ég, er þetta sú aðferðarfræði sem okkur hugnast eða hugnast ekki hvað varðar vegatoll á Reykjanesbraut? Væri ekki ágætt að leggja þetta fyrir þjóðina og sjá hvort þessir vegatollar séu henni að skapi eða ekki? Þá fengist lýðræðisleg niðurstaða sem allir gætu sætt sig við. Margrét Sigrún Þórólfsdóttir
Auglýsingasíminn er
421 0001
fimmtudagur 23. febrúar 2017
17
VÍKURFRÉTTIR
HVERS VEGNA ÆTTI FÓLK AÐALFUNDIR DEILDA UMFN 2017 AÐ GEFA BLÓÐ? VERÐA SEM HÉR SEGIR: Blóðbankabílinn í Reykjanesbæ 28. febrúar 2017 Blóðbankinn gegnir mikilvægu hlutverki í heilbrigðisþjónustu Íslendinga, þótt venjulega fari það ekki mjög hátt. Sjúkir, slasaðir og þeir sem þurfa skurðaðgerðir treysta á það að Blóðbankinn eigi ávallt nægar birgðir blóðs og blóðhluta. Blóðbankinn treystir á okkur blóðgjafana, að við séum fús og reiðubúin til þess að gefa blóð. Í Bretlandi eru 2/3 hlutar gefins blóðs nýttir vegna sjúkdóma, þar með talið blóðleysis, krabbameins og blóðsjúkdóma. Rúmlega fjórðungur er notaður vegna skurðaðgerða, hjartaskurðaðgerða og skyndiaðgerða til dæmis vegna slysa. Lítill hluti er notaður vegna blóðmissis við fæðingar. Þessi dæmi eru nefnd til þess að leggja áherzlu á mikilvægi þess að gefa blóð. Blóðgjöf bætir einnig lífsgæði margra sem stríða við ólæknandi sjúkóma, gerir þeim lífið léttara. Ávallt er þörf blóðs. Því er afar mikilvægt að blóð-
gjafar sinni því að gefa blóð, öðrum og þurfandi til góðs. Blóðgjöf er lífgjöf. Blóðbankinn þarf 70 blóðgjafa á hverjum degi til þess að tryggja nægar birgðir. Allir sem vettlingi geta valdið eða öllu heldur búa við góða heilsu eru hvattir til þess að líta við í Blóðbankabílnum milli klukkan 10:00 og 17:00 næsta þriðjudag, 28. febrúar og gefa blóð. Bíllinn verður eins og venjulega við KFC í Krossmóa. Þeir sem vilja gerast blóðgjafar eru hvattir til þess að mæta og fara í prufutöku. Konur mega gefa á fjögurra mánaða fresti, en karlar á þriggja mánaða fresti. Blóðgjafar geta allir orðið til 65 ára aldurs. Mætum í Blóðbankabílinn, brettum upp ermar og látum gott af okkur leiða.
Fimmtudagur 2. mars Sunddeild UMFN
Mánudagur 6. mars Knattspyrnudeild UMFN
Þriðjudagur 7. mars Þríþrautardeild UMFN
Miðvikudagur 8. mars Júdódeild UMFN
Fimmtudagur 9. mars Líkams- og kraftlyftingardeild UMFN
Mánudagur 13. mars Körfuknattleiksdeild UMFN
Allir fundir hefjast kl. 19:30 og verða í íþróttahúsinu í Njarðvík, sal félagsins á annarri hæð, nema fundur knattspyrnudeildarinnar sem verður í íþróttavallarhúsinu. Allir velkomnir
Ólafur Helgi Kjartansson, blóðgjafi
ATVINNA 100% atvinna hjá Icelandair Cargo ehf. Keflavíkurflugvelli Icelandair Cargo ehf. óskar eftir að ráða þjónustulipran og ábyrgðarfullan starfsmann í 100% atvinnu á skrifstofu félagsins á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða fjölbreytt skrifstofustarf við tollskjalagerð, skjalavinnslu og almenn skrifstofustörf þar sem reynir á sjálfstæð og öguð vinnubrögð auk skipulagsfærni og nákvæmni í starfi. STARFSSVIÐ: · Tollskjalagerð · Samskipti og þjónusta við viðskiptavini · Skjalavinnsla · Upplýsingagjöf · Önnur skrifstofustörf MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR: · Námskeið í tollskjalagerð eða hafa unnið við tollskjalagerð er æskilegt · Stúdentspróf eða sambærileg menntun · Góð almenn tölvukunnátta m.a. á Microsoft Office forrit og Navision · Jákvæðni og rík þjónustulund · Hæfni til þess að vinna sjálfstætt sem og undir álagi · Góð samskiptahæfni · Góð íslensku- og enskukunnátta Unnið er virka daga frá kl. 8:00 - 16:00. Fólk með þekkingu og/eða reynslu úr flugheiminum er sérstaklega hvatt til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 1. mars 2017. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir óskast sendar til Soffíu Axelsdóttur, deildarstjóra Miðlunar hjá Icelandair Cargo ehf. á Keflavíkurflugvelli, á netfangið soffia@icelandaircargo.is. Lágmarksaldur umsækjanda er 20 ár.
NETTÓ KROSSMÓA Nettó Krossmóa, Reykjanesbæ leitar að öflugum starfsmönnum í Afgreiðslustörf í verslun - hlutastörf. Aðeins 18 ára og eldri koma til greina.
Hæfniskröfur:
Áhersla er lögð á styrkleika í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni, reglusemi og árverkni í hvívetna.
• Áreiðanleiki.
Viðkomandi þurfa að getað hafið störf sem fyrst.
• Reynsla af verslunarstörfum æskileg.
• Færni í mannlegum samskiptum. • Sjálfstæð vinnubrögð.
Umsóknir sendist á krossmoi@netto.is Umsóknarfrestur er til 12. mars nk. Allar nánari upplýsingar veitir, Heiðar Róbert Birnuson, verslunarstjóri í síma 861-5464
NETTÓ IÐAVÖLLUM Nettó Iðavöllum, Reykjanesbæ leitar að öflugum starfsmanni í afgreiðslustarf á kassa / bakstur 100% starf.
Hæfniskröfur:
Áhersla er lögð á styrkleika í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni, reglusemi og árverkni í hvívetna.
• Áreiðanleiki.
Viðkomandi þarf að getað hafið störf eigi síðar en 14. mars.
• Reynsla af verslunarstörfum æskileg.
• Færni í mannlegum samskiptum. • Sjálfstæð vinnubrögð.
Umsóknir sendist á idavellir@netto.is Umsóknarfrestur er til 12. mars nk. Allar nánari upplýsingar veitir, Sebastian Rebisz, verslunarstjóri í síma 777-1625
Suðurnesjamagasín • fimmtudagskvöld kl. 20:00 og 22:00 • Hringbraut og vf.is
Fasteignafjörið á Suðurnesjum
GEIMSTÖÐIN Á ÁSBRÚ!
SARA SIGMUNDS
SEINNI HLUTI
18
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 23. febrúar 2017
Sumarstörf í boði UPS óskar eftir starfsmanni á tollafgreiðslusvið og bílstjóra í sumar. Meðal verkefna tollafgreiðslusviðs eru: Tollskjalagerð, skráning gagna, símsvörun, og önnur tilfallandi störf. Enskukunnátta, töluð og rituð, reynsla af tollskjalagerð og gott vald á Navision æskileg. Meðal verkefna bílstjóra eru: Útkeyrsla sendinga á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu. Innheimta greiðslna og samskipti við viðskiptavini. Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir og þjónustulundaðir. Vinsamlega sendið inn umsókn í gegnum heimasíðu okkar www.express.is fyrir 1. mars 2017. UPS er stærsta og öflugasta hraðsendingafyrirtæki heims með þjónustunet til rúmlega 220 landa um allan heim. Undanfarin ár hefur UPS verið í mikilli sókn í Evrópu. Daglega eru afhentir tæplega 16 milljónir pakka um allan heim.
FAGLEG, TRAUST OG PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA VIÐ BJÓÐUM MEDISMART RUBY BLÓÐSYKURMÆLA, STRIMLA, BLÓÐHNÍFA OG NÁLAR FRÍTT FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ SKÍRTEINI FRÁ TR. MJÖG EINFALDUR Í NOTKUN, STÓR SKJÁR, LÉTTUR OG HANDHÆGUR - „No coding“ þarf ekki að núllstilla - Þarf mjög lítið magn til mælinga, aðeins 0,6µl - Mælir blóðsykur á bilinu 1.1 - 35 mmol/L - Mæling tekur aðeins 5 sek. - Geymir 480 mælingar í minni - Hægt að tengja við tölvu Apótek Suðurnesja leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarksverði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.
Sigurbjörg var búin að spila nokkra leiki áður en kom að bikarúrslitum. Mesta stressið var því horfið áður en komið var í Höllina.
Bikarhetja eftir baráttu við erfið höfuðmeiðsli ●●Þungt höfuðhögg hélt Sigurbjörgu frá skóla og íþróttum í langan tíma Sigurbjörg Eiríksdóttir var á dögunum valinn besti leikmaður í bikarúrslitaleik 10. flokks kvenna í körfubolta. Það er auðvitað afrek út af fyrir sig - en það sem gerir afrek Sigurbjargar enn merkilegra er að í sömu viku hafði hún útskrifast af Barnaspítala Hringsins vegna alvarlegra höfuðmeiðsla sem héldu henni frá körfubolta í rúma þrjá mánuði. Hin 16 ára gamla Sigurbjörg er efnileg íþróttakona og æfir körfu og fótbolta og hefur tekið þátt í landsliðsúrtökum í báðum greinum. Hún hefur enn ekki ákveðið hvora íþróttina hún leggur fyrir sig en stefnir á að ná langt. Hún var einmitt á landsliðsæfingu í fótbolta þegar hún varð fyrir meiðslunum. Þannig atvikaðist að hún fékk olnbogaskot í gangaugað en fann ekki mikið fyrir því í fyrstu. Hún var þó
mikið þreytt og tveimur dögum síðar fann hún að mátturinn í vinstri hlið líkamans fór að þverra.
Gat ekki verið án sólgleraugna og svaf mikið
Hún leitaði því læknisaðstoðar og dvaldi í nokkra daga á sjúkrahúsi þar sem hún var skoðuð í bak og fyrir. Ljóst var að meiðslin voru talsvert alvarleg og Sigurbjörg var frá öllum æfingum og missti talsvert úr skóla næstu mánuðina. „Fyrsta mánuðinn eftir atvikið gat eg ekki verið án sólgleraugna, var með mikinn höfuðverk og svaf mjög mikið og gat þess vegna ekki verið mikið í skólanum. Ég er orðin nokkuð góð í dag en það er enn hlutir sem vantar upp á og það kemur vonandi bráðum,“ segir Sigurbjörg. Hún þurfti að leita til sjúkraþjálfara
Verið velkomin
Hringbraut 99 - 577 1150
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00
Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.
TJALDSVÆÐI
Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
Sveitarfélagið Vogar auglýsir eftir áhugasömum aðilum til uppbyggingar og reksturs tjaldsvæðis í Vogum. Tjaldsvæðið er staðsett í námunda við íþróttamiðstöð og íþróttasvæði sveitarfélagsins. Lítið þjónustuhús með wc og uppþvottaaðstöðu er á svæðinu, með tengingu við rafmagn fyrir gesti. Sveitarfélagið leitar að áhugasömum aðilum sem hafa áhuga á að taka þátt í uppbyggingu svæðisins í samvinnu við sveitarfélagið, ásamt því að annast reksturinn. Áhugasamir aðilar eru hvattir til að hafa samband við bæjarstjóra með því að senda tölvupóst á netfangið asgeir@vogar.is eða hafa samband í síma 440 6200.
til þess að ná tökum á jafnvæginu aftur. Næstu sex mánuðina fór hún svo reglulega í eftirlit hjá taugalækni. Eftir að hafa fengið grænt ljós frá læknum mætti Sigurbjörg galvösk til leiks þegar Keflvíkingar léku til úrslita gegn grönnum sínum í Njarðvík í úrslitum bikarkeppni 10. flokks á dögunum. Þar gerði hún sér lítið fyrir og var kjörin maður leiksins. Skoraði 12 stig, tók 9 fráköst og gaf 4 stoðsendingar á 29 mínútum í 48:40 sigri Keflavíkur. Sigurbjörg er góð í vörninni og var á síðasta lokahófi valin besti varnarmaðurinn í sínum flokki. Hörkutólið Sigurbjörg hefur æft fótbolta í tíu ár og körfubolta í fimm ár. Hún er uppalin í Grindavík en fjölskyldan fluttist til Reykjanesbæjar síðasta vor en hún hefur æft með Keflavík undanfarin þrjú ár.
BÍLAVIÐGERÐIR
Hundrað hressir kylfingar í vetrarmóti í Leirunni Hundrað kylfingar léku golf á Opna Nóa&Síríus mótinu sem haldið var við flottar aðstæður á Hólmsvelli í Leiru 18. Febrúar sl. Aldrei fyrr hefur opið mót verið haldið í Leiru svo snemma árs og leikið inn á sumarflatir. Benedikt Sigurðsson úr GS sigraði en leikið var með punktafyrirkomulagi. Benedikt fékk 42 punkta. Sigurður Jónsson úr GG og Bergþór Njáll Kárason úr GO komu næstir með 40
SMURÞJÓNUSTA VARAHLUTIR
punkta. Sextán kylfingar voru með 36 punkta eða meira. Golfið var því nokkuð gott hjá kylfingum þrátt fyrir litla ástundun um miðjan vetur. Kylfingar voru alsælir með aðstæður, veðrið var mjög gott, sérstaklega fyrri part dags. Jóhann Páll Kristbjörnsson, formaður GS sagði að ef það yrði áfram blíða yrði boðið upp á fleiri opin mót inn á sumarflatir.
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
fimmtudagur 23. febrúar 2017
19
VÍKURFRÉTTIR
KÖRFUBOLTASNILLINGUR
ÖRVHENTUR EINS OG JAMES HARDEN Körfuboltasnillingur vikunnar er Njarðvíkingurinn Róbert Shawn Birmingham. Róbert æfir fjórum sinnum í viku auk þess að gera aukaæfingar með pabba sínum. Hann stefnir á að spila í útlöndum í framtíðinni. SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR KL. 11:00 Messa og sunnudagaskóli með sameiginlegt upphaf. Messuþjónar taka á móti gestum og lesa ritningartexta, Kór Keflavíkurkirkju leiðir sálmasöng undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista, sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað og í umsjón Systu, Unnar og Helgu. Súpa og brauð í boði eftir messu. MÁNUDAGUR 27. MARS Coda fundur í fundarherbergi Kirkjulundar kl. 19:30 og AA fundur í Kirkjulundi kl. 21:00. MIÐVIKUDAGUR 1. MARS KL. 12:00 Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar í umsjón presta og organista. Keflvíkingurinn Keflvíkingurinn of presturinn Petrína Mjöll kemur í heimsókn og flytur okkur hugleiðingu. Tilefnið er nýútkomin bók hennar Salt og hunang. Gæðakonur matreiða sýpu og brauð. MIÐVIKUDAGUR 1. MARS Fermingarfræðsla í KFUM og KFUK heimilinu Hátúni 36 fyrir stúlkur, Holtaskólastelpur kl. 15:45 og Heiðar- og Myllubakkaskólastelpur kl. 16:45 FIMMTUDAGUR 2. MARS Fermingarfræðsla í KFUM og KFUK heimilinu Hátúni 36 fyrir drengi, Holtaskólastrákar kl. 15:45 og Heiðar- og Myllubakkaskólastrákar kl. 16:45.
Aldur og félag: 12 ára og er í Njarðvík. Hvað æfir þú oft í viku? Fjórum sinnum og geri líka boltaæfingar heima með pabba. Hvaða stöðu spilar þú? Bakvörður. Hver eru markmið þín í körfubolta? Verða betri og spila í útlöndum.
Skemmtilegasta æfingin? Allt.
MEISTARAFLOKKUR KARLA
Leiðilegasta æfingin? Ekkert. Eftirlætis körfuboltamaður/kona á Íslandi? Logi Gunnarsson.
KEFLAVÍK - HAUKAR
Eftirlætis körfuboltamaður/kona í NBA? James Harden, hann er örvhentur eins og ég.
TM-HÖLLIN FIMMTUDAGINN 23. FEBRÚAR KL. 19:15
Lið í NBA? New York Knicks.
HAMBORGARARNIR VERÐA Á SÝNUM STAÐ HSS FISKVERKUN
ATVINNA Óskum eftir starfsfólki í fiskvinnslu í Reykjanesbæ. Áhugasamir hafi samband í síma 852-2272.
BJÓÐUM VELKOMNA TIL LEIKS
ÍSLANDSMEISTARANA
NJARÐVÍK
KR
MEISTARAFLOKKUR KARLA
FÖSTUDAGINN // 24. FEBRÚAR // KL. 20:00
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001
Mundi STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
facebook.com/vikurfrettirehf
Hótel stækkar um 6000 fermetra
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
Mér skilst að lóða yatzy sé vinsælasta spilið núna á skrifstofum Reykjanesbæjar.
UMBOÐSAÐILI
■■Framkvæmdir eru að fara á fullt við 6000 fermetra stækkun á hóteli við hlið Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli en með stækkuninni mun hótelið þrefaldast að stærð. Mikil uppbygging á sér nú stað á flugvallarsvæðinu í nágrenni flugstöðvarinnar. Öll fyrirtæki í flugtengdri þjónustu eru að sprengja utan af sér húsakost og í þörf fyrir stækkun, segir Jón Ben Einarsson, skipulags- og byggingafulltrúi í Sandgerði og Garði. Hann segir jaðra við vandræðaástand hjá mörgum aðilum. Nýjum lóðum hefur ekki verið úthlutað við flugstöðina í nokkurn tíma þar sem unnið er að því að klára skipulagsvinnu þar. Sú vinna hefur dregist úr hófi og tefur áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu.
Mörg sveitarfélög þurfa að reiða sig á samstarf ■■Verkefnastjórn um eflingu sveitarstjórnarstigsins boðaði fulltrúa sveitarfélaganna á Suðurnesjum til samráðsfundar fyrr í vikunni. Samkvæmt verkefnaáætluninni eru megin markmið verkefnisins að leggja fram tillögur sem meðal annars stuðla að stærri, öflugri og sjálfbærum sveitarfélögum; breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga; markvissari samskiptum ríkis og sveitarfélaga; nýtingu rafrænnar tækni við stjórnsýslu og lýðræðislegri þátttöku íbúa í stefnumörkun og ákvarðanatöku á öllum sviðum. Fundurinn var ágætlega sóttur og góðar umræður voru um málefnið. Það er athyglisverð staðreynd að sveitarfélögin í landinu eru 74 talsins, en þeim hefur fækkað talsvert frá því þegar þau voru flest. Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, er með pistil um fundinn í vikulegu fréttabréfi sem hann gefur út í Vogum: „Á okkar svæði er Reykjanesbær fjölmennasta sveitarfélagið með sína liðlega 17 þúsund íbúa, en það fámennasta eru Vogar með um 1.200 íbúa. Um 43 sveitarfélög í landinu hafa færri íbúa en Vogar, sem segir heilmikið um hversu mörg sveitarfélög þurfa að reiða sig á samstarf um úrlausn ýmissa verkefna, sem fámenn sveitarfélög hafi ekki burði til að sinna. Umræðan um eflingu sveitarstjórnarstigsins er þýðingarmikil, ekki síst ef takast á að færa fleiri verkefni frá ríkinu til sveitarfélaganna.“
HYUNDAI I10 verð frá 1.790.000.-
HYUNDAI I20 verð frá 2.190.000.-
HYUNDAI TUCSON verð frá 3.890.000.-
HYUNDAI I30 STATION verð frá 2.990.000.-
HYUNDAI SANTA FE verð frá 5.990.000.-
GRAF FRÁ FÍB (BILANATÍÐNI)
Helmingur vill að sundhöllin standi ■■Aðeins 1% fleiri þátttakenda í vefkönnun Víkurfrétta er sama þótt gamla Sundhöllin í Keflavík verði rifin niður og annað hús byggt á lóðinni. 47% þeirra sem tóku þátt sögðu að það mætti rífa húsið og nýta flotta lóð fyrir nýja byggingu. 46% vilja að húsið standi og 6% höfðu ekki skoðun á málinu. Nærri 400 manns tóku þátt í könnuninni. Ný könnun hefur verið sett inn á vefinn og nú er spurt út í vegatolla en heit umræða hefur verið um málið að undanförnu.
EKKI SÆTTA ÞIG VIÐ 5. SÆTI Bolafótur 1 - 260 Reykjanesbær - GE bílar ehf - Sími 420 0400 - gebilar@gebilar.is - www.gebilar.is