• fimmtudagurinn 9. mars 2017 • 10. tölublað • 38. árgangur
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Hafna byggingu 22 gistihúsa á Garðskaga ■■Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs hefur staðfest afgreiðslu skipulagsog bygginganefndar Garðs þar sem lagst er gegn byggingu 22 gistihúsa á tveimur lóðum við Norðurljósaveg á Garðskaga. Norðurljós gestahús ehf. í samstarfi við Völundarhús ehf. óskuðu eftir að fá úthlutað lóðunum við Norðurljósaveg 4 og 6 til að reisa á þeim 22 gistihús til útleigu fyrir ferðamenn. Nefndin tók jákvætt í úthlutun lóðanna en hafnaði hins vegar þeim hugmyndum um uppbyggingu sem lagðar eru fram með erindinu. „Ásýnd þeirrar uppbyggingar sem lögð er til, samræmist frístundabyggð frekar en nokkru öðru, en lóðirnar eru ekki skipulagðar sem frístundabyggð, heldur hugsaðar undir uppbyggingu stærri og varanlegri mannvirkja sem uppfylla ákvæði byggingarreglugerðar um heilsárshús. Þá er nýtingarhlutfall lóðanna skv. tillögu engan veginn viðunandi (0,05-0,06) og stendur þ.a.l. ekki undir kostnaði vegna uppbyggingar innviða og umgjarðar vegna lóðanna,“ segir í afgreiðslu nefndarinnar. Bæjarstjórn Sveiarfélagsins Garðs samþykkti svo afgreiðslu nefndarinnar með sex atkvæðum en Gísli Heiðarsson sat hjá við afgreiðsluna. Hann er að byggja hótel á næstu lóð við þær sem sótt var um undir gistihúsin.
Hrognin eru komin og körin klár. Gunnar Jóhannsson með lúkufylli af flottum loðnuhrognum sem fara öll til frystingar í Saltveri í Njarðvík. VF-mynd: Hilmar Bragi
Hrognin eru komin í Helguvík
■■Hrognataka úr loðnu stendur nú yfir í Helguvík og hefur staðið stanslaust yfir síðustu átta sólarhringa. Um miðjan dag í gær voru körin orðin 1400 talsins eða um 1000 tonn af hrognum. Hrognin fara til frystingar hjá Saltveri í Njarðvík. Tvö loðnuskip hafa forgang í löndun til hrognatöku í Helguvíkurhöfn. Það eru Vilhelm Þorsteinsson EA og grænlenska skipið Polar Amaroq. Sá grænlenski kom til hafnar í gær með 2200 tonn af loðnu til hrognatöku en tvo sólarhringa tekur að landa úr skipinu. Vilhelm Þorsteinsson EA er svo væntanlegur á morgun með fullfermi. Gunnar Jóhannsson hefur staðið vaktina í Helguvík síðustu daga. Hann á von á því að hrognatakan standi fram yfir helgi en unnið er allan sólarhringinn í Helguvík við hrognatökuna. Gríðarleg verðmæti liggja í loðnuhrognum en verðmæti þeirra er meira en tífalt á við að aflinn fari til bræðslu.
Of langur tími án aðgerða ●●Þrjú banaslys á Grindavíkurvegi á áratug l Bæjaryfirvöld í Grindavík funda með vegamálastjóra Banaslysið á Grindavíkurvegi aðfararnótt síðasta laugardags er annað banaslysið á veginum á þessu ári. Í slysinu hafnaði bíll utan vegar og ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, lést. Þar á undan varð banaslys á veginum 12. janúar síðastliðinn þegar bílar, sem ekið var úr gagnstæðum áttum, lentu saman. Í því slysi lést ökumaður annars bílsins. Alls hafa orðið þrjú banaslys á veginum síðan árið 2007.
Eftir banaslysið í janúar var stofnaður hópur í Grindavík til að þrýsta á um úrbætur á veginum. Hann skipa fulltrúar úr bæjarstjórn, bæjarstjóri, Vilhjálmur Árnason þingmaður og fulltrúar frá Bláa Lóninu, Jóni og Margeiri, HP gámum, Vísi og Þorbirni. Fulltrúar hópsins munu funda með vegamálastjóra í dag og með samgönguráðherra í næstu viku. Að sögn Kristínar Maríu Birgisdóttur, forseta bæjarstjórnar Grindavíkur, er brýnt að
ráðast í úrbætur á veginum sem fyrst. „Vegurinn er ekki eins og við viljum hafa hann. Það hefur liðið langur tími án aðgerða,“ segir hún. Á fundinum í dag mun vegamálastjóri kynna niðurstöður athugunar Vegagerðarinnar á ástandi vegarins. „Við munum kynna okkur tillögur vegamálastjóra og einnig leggja fram ýmis rök fyrir því að ráðist verði í lagfæringar hið fyrsta.“/dhe Sjá nánar á bls. 2.
Meðfylgjandi mynd var tekin yfir framkvæmdasvæðið í síðustu viku eftir að sökklarnir höfðu verið muldir niður. VF-mynd: Hilmar Bragi
Stækka kirkjugarðinn að Útskálum og jarða „2007“ ■■Nú er unnið að fyrsta áfanga stækkunar á Útskálakirkjugarði norðan við Útskálakirkju. Lokið verður við áfangann í sumar. Umtalsverð stækkun á garðinum hefur verið hönnuð en heildarkostnaður við verkið verður um 35 milljónir sem dreifist yfir nokkur ár. Sveitarfélagið Garður og sóknarnefnd Útskálakirkju hafa gert samning um framkvæmdina og kostnaðarskiptingu en sóknarnefndin og sveitarfélagið munu fjármagna kostnað við verkið.
Önnur framkvæmd vekur mun meiri eftirtekt að Útskálum. Í góðærinu fyrir rúmum áratug hófust menn handa við uppbyggingu á bæði hóteli og safnaðarheimili á Útskálatúninu. Sökklar undir safnaðarheimili og hluta hótelsins höfðu verið steyptir en þá skall á kreppa og áformin urðu að engu. Sveitarfélagið Garður eignaðist svo sökklana á uppboði. Nú hefur 2007-draumurinn verið jarðaður ef svo má að orði komast. Sökklarnir hafa verið jafnaðir við jörðu. Endurskipulagning á svæðinu þar sem sökklarnir stóðu stendur nú yfir.
Hafnargötu 20, 230 Reykjanesbær S: 420 4000
FÍTON / SÍA
Guðlaugur H. Guðlaugsson lögg. fasteignasali einföld reiknivél á ebox.is
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
Halldór Magnússon lögg. fasteignasali Brynjar Guðlaugsson aðstm. fasteignasala Haraldur Freyr Guðmundsson aðstm. fasteignasala studlaberg@studlaberg.is
studlaberg.is
2
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. mars 2017
„Ástandið á Grindavíkurvegi þolir enga bið“ ●●Grindvíkingar funda með samgönguráðherra og vegamálastjóra
Banaslys á Grindavíkurvegi ■■Konan sem lést í umferðarslysi á Grindavíkurvegi aðfararnótt sunnudags hét Guðrún Pálsdóttir. Hún var fædd árið 1971 og til heimilis í Hafnarfirði. Slysið varð 1,7 kílómetra norður af mótum Grindavíkurvegar og Norðurljósavegar.
AÐALFUNDUR Í SAMKAUPUM HF. Stjórn Samkaupa hf. boðar hér með til aðalfundar í félaginu fyrir rekstrarárið 2016. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 15. mars kl. 15.00 á skrifstofu félagsins að Krossmóa 4a, 260 Reykjanesbæ. Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr. samþykkta félagsins. Þá verður lögð fyrir fundinn tillaga um að félagið megi eignast og eiga allt að 10% hlutafjár í félaginu í 3. ár. Stjórn Samkaupa hf.
Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@vf.is
Banaslysið á Grindavíkurvegi aðfararnótt síðasta laugardags er annað banaslysið á veginum á þessu ári. Í slysinu hafnaði bíll utan vegar og ökuKristín María maðurinn, sem var Birgisdóttir, einn í bílnum, lést. forseti bæjarEftir að banaslys varð stjórnar á veginum í janúar í Grindavík. síðastliðnum var stofnaður hópur í Grindavík til að þrýsta á um úrbætur vegarins. Hann skipa fulltrúar bæjaryfirvalda og nokkurra fyrirtækja í Grindavík. Fulltrúar hópsins munu funda með vegamálastjóra í dag, fimmtudag, og með samgönguráðherra í næstu viku. Að sögn Kristínar Maríu Birgisdóttur, forseta bæjarstjórnar Grindavíkur, er brýnt að ráðast í úrbætur á veginum sem fyrst. „Vegurinn er ekki eins og við viljum hafa hann. Það hefur liðið langur tími án aðgerða. Allar framkvæmdir taka tíma og því þarf að byrja strax að undirbúa aðgerðir á Grindavíkurvegi því ástandið þolir enga bið,“ segir hún.
Á fundinum í dag mun vegamálastjóri kynna niðurstöður Vegagerðarinnar á ástandi vegarins. „Við munum kynna okkur tillögur vegamálastjóra og leggja fram ýmis rök fyrir því að ráðist verði í lagfæringar hið fyrsta.“ Kristín nefnir sem dæmi að brýnt sé að aðskilja akstursstefnur og að ekki dugi til að setja vegrið á svo lélegan veg sem Grindavíkurvegurinn sé. „Það þarf að breikka veginn enda er gríðarleg umferð um hann. Langbest væri auðvitað að tvöfalda veginn en líklega raunhæft að byrja á 2+1. Fjöldi ferðamanna keyrir um veginn og margir þeirra eru að keyra sína fyrstu kílómetra á Íslandi á veginum. Þar er líka mikil hálkumyndun enda liggur vegurinn yfir vatnsverndarsvæði. Sú staðreynd kallar líka á tafarlausar aðgerðir því öll heimili og atvinnulífið á Suðurnesjum treysta á vatn þaðan. Við höfum þær upplýsingar frá sérfræðingi að aðeins 500 lítra olíuslys geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir öll Suðurnesin.“ Þá nefnir Kristín að íbúum í Grindavík hafi fjölgað mikið og muni að öllum líkindum halda áfram að fjölga á næstu árum sem auki umferð um veginn enn frekar. Ólafur Guðmundsson, tæknistjóri EuroRAP á Íslandi, greindi frá því í
viðtali við Víkurfréttir í janúar síðastliðnum líklegt að gufa frá virkjun setjist á veginn, þannig myndist hálka og að það þurfi að rannsaka. Mjög líklega sé vatn undir hrauninu og mikill raki þaðan sem gufi upp. Við þetta aukist líkur á hálkumyndun til muna. Umferð um Grindavíkurveg hefur aukist mikið undanfarin ár. Árið 2012 keyrðu að meðaltali 2755 bílar um Grindavíkurveg á dag, framhjá Seltjörn, en árið 2016 var fjöldinn kominn upp í 4232 og er fjölgunin því 53,6 prósent. „Þegar fjöldi bíla á vegi er orðinn svona mikill þá aukast mjög mikið líkurnar á að fari ökumaður yfir á rangan vegarhelming þá lendi hann á öðrum bíl. Það er því brýnt að aðgreina gagnstæðar aksturstefnur til dæmis með víravegriði en þannig yrði hægt að koma í veg fyrir framanáakstur,“ sagði hann. EuroRAP er eftirlitskerfi með öryggi vega í Evrópu og eru aðildarfélögin FÍB og systurfélög þess í álfunni. Vegir er skoðaðir á vegum EuroRAP og ástand þeirra metið eftir stöðluðu alþjóðlegu kerfi sem greinir öryggi þeirra.
„Fjöldi ferðamanna keyrir um veginn og margir þeirra eru að keyra sína fyrstu kílómetra á Íslandi á veginum“
Spyrlar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Fyrirtækið Epinion óskar eftir að ráða spyrla til starfa við upplýsingaöflun með spurningalistum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Leitað er eftir fólki sem er opið að eðlisfari, er frambærilegt, forvitið og á gott með að eiga samskipti við annað fólk, sem og ábyrgt og áreiðanlegt. Um er að ræða starf sem býður upp á sveigjanleika og talsverðan frítíma, og hentar því vel sem hlutastarf eða starf með námi. Í grunninn eru spurningar lagðar fram á Ipad spjaldtölvu eða í formi spurningalista til farþega sem leið eiga um flugvöllinn, í þeim tilgangi að byggja upp þekkingu og gagnagrunn fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Hæfniskröfur - Epinion leggur mikla áherslu á að starfsfólk endurspegli samfélagið og hvetur fólk óháð aldri, kyni, menntun eða þjóðerni til að sækja um umræddar stöður. - Starfið krefst góðs valds á íslensku og ensku, bæði í lestri, ritun og samræðum. - Krafist er framlagningu sakavottorðs. - Viðkomandi þarf að geta unnið á milli 7 og 37 stunda á viku. Starfið fer fram á afgreiðslutíma flugvallarins, þ.e. frá morgni allt þar til seint á kvöldin, sjö daga vikunnar. - Reynsla af starfi spyrils er kostur en ekki krafa, þar sem boðið er upp á alla nauðsynlega þjálfun. Í boði er afar samkeppnishæft tímakaup með álagsgreiðslum fyrir kvöld, helgar og frídaga. Starfsumsóknir ásamt ferilskrá skulu sendast á Jonas Vesterli Jeppesen á netfangið jvj@epinionglobal.com. Frekari upplýsingar um starfið veitir Sigmundur Sigurgeirsson á netfanginu sigmundur@novacon.is Frekari upplýsingar um fyrirtækið Epinion má finna á Epinionglobal.com
Rúmlega 40 kvartanir vegna lyktar frá Helguvík ●●Íbúar loka gluggum vegna mengunar Rúmlega fjörutíu ábendingar og kvartanir um lykt frá Helguvík bárust til Umhverfisstofnunar á sunnudagskvöld og mánudagsmorgunn. Ábendingarnar voru bæði vegna brunalyktar frá kísilverksmiðju United Silicon og vegna lyktar frá fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar. Að sögn Sigrúnar Ágústsdóttur, sviðsstjóra hjá Umhverfisstofnun, voru kvartanir vegna brunalyktar í forgrunni. Hún segir íbúa hafa nefnt sömu einkenni vegna mengunar og áður; sviða í nefholi og hálsi, óþægindi við öndun, aukin einkenni astma og herping í hálsi og sviða í augum. Íbúar í Reykjanesbæ ræddu nokkrir um mengunina á samfélagsmiðlum
á mánudag og nefndu meðal annars að ekki hafi verið hægt að hafa glugga opna. „Við munum kalla eftir skýringum á lyktinni og bera saman við vindáttir líkt og venjulega og vinna úr niðurstöðunum,“ segir Sigrún. Fólki hefur verið ráðlagt að leita til læknis telji það þörf á vegna áhrifa mengunarinnar. Sóttvarnalæknir fylgist með því hvort fólk leiti til læknis vegna áhrifa mengunarinnar og segir Sigrún að ekki hafi orðið aukning á komum til lækna vegna hennar. Þá hefur sóttvarnalæknir fylgst með því hvort notkun á astmalyfjum hafi aukist og svo er ekki.
20%
MÁLNINGARDAGAR
AFSLÁTTUR AF ALLRI INNIMÁLNINGU 9. - 15. MARS
byko.is
AUÐVELT AÐ VERSLA Á BYKO.IS SENDUM ÚT UM ALLT LAND
markhönnun ehf
-46%
SIRLONSNEIÐAR Í RASPI - FERSKT KR KG ÁÐUR: 2.769 KR/KG
1.495
Komdu við í Nettó DILKALIFUR FROSIN KR KG ÁÐUR: 598 KR/KG
299
KJÚKLINGALUNDIR DANPO - 700G. KR PK ÁÐUR: 1.498 KR/PK
-36%
-50%
-27%
1.094
-20%
PIPARSTEIK FERSKT
3.758
KR KG ÁÐUR: 4.698 KR/KG
GRANDIOSA PIZZA 5 TEGUNDIR KR PK ÁÐUR: 789 KR/PK
279
1.319
ÁVAXTASAFI 3 TEGUNDIR JAFFA 1L KR PK ÁÐUR: 149 KR/PK
599
CADBURY BAR OREO SÚKKUL.120 GR. KR PK ÁÐUR: 349 KR/PK
KALKÚNABOLLUR FULLELDAÐ KR KG ÁÐUR: 2.198 KR/KG
119
DR.PEPPER DÓS - 33 CL KR PK ÁÐUR: 89 KR/PK
69
ROLO NESTLE - 3X52 GR. KR PK ÁÐUR: 259 KR/PK
198
Tilboðin gilda 9. – 12. mars 2017 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
RÚ GÓA LJÓ
4
Frábært verð!
LAMBALÆRI FROSIÐ
1.199
KR KG ÁÐUR: 1.394 KR/KG
ÓDÝRT Í
-35%
% KALKÚNABRINGUR ERLENDAR KR KG ÁÐUR: 2.498 KR/KG
1.599
-36%
LAMBALÆRI ÚRBEINAÐ MEÐ PIPAROSTI OG RÓSMARIN KR KG ÁÐUR: 3.598 KR/KG
BJÚGU - 6 STK. KR PK ÁÐUR: 899 KR/PK
539
2.339
-50% RÚSÍNUR GÓA - DÖKKAR EÐA LJÓSAR - 400 GR. KR PK
Bláber á tilboði
-40% BLÁBER BOX - 125G. KR PK ÁÐUR: 489 KR/PK
245
LAKKRÍSKONFEKT GÓA APOLLO - 300 GR. KR PK
370
459
Pussi kattamatur og Friskies hundamatur á 20% afslætti
-20% www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hafnarfirði · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss
6
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. mars 2017
RITSTJÓRNARPISTILL Páll Ketilsson
Vegatollar Vegatollar fá ekki atkvæði frá fólki og í könnun sem gerð var á Víkurfréttavefnum í síðustu viku voru meira en átta af hverjum tíu sem kaupa ekki þá hugmynd sem samgönguráðherra hefur slegið fram. Hann vill flýta samgönguverkefnum, fá fjármagn í lagfæringar á vegum víða um land. Ökumenn á Íslandi eru hins vegar ekki ginkeyptir fyrir hugmyndinni því þeir treysta ekki stjórnvöldum til að fara með tollpeninginn sem þeir myndu greiða, - í vegabætur. Það eru margir tugir milljarða sem koma í ríkiskassann með bensíngjaldi en þeir fara ekki nema að hluta til í samgöngubætur. Ríkið segir að það sé ekki hægt að eyrnamerkja peninga þannig, þ.e. að einhver ákveðin gjaldtaka skili sér á þann stað þar sem hún er tekin. Með öðrum orðum: Gjaldtaka á Reykjanesbraut myndi ekki endilega fara í framkvæmdir við brautina. Þetta á almenningur erfitt með að skilja. Sá sem þetta skrifar er mjög fylgjandi því að setja vegatolla því annars verða úrbætur á vegakefinu alltof hægar. Það er mikilvægt að fá meiri hraða í úrbætur á vegum því annars tapa fleiri lífinu í bílslysum. Með betri vegum er hægt að minnka þá hættu. Það yrði hins vegar að vera öruggt að svona bein gjaldtaka skilaði sér í vegakerfið. Svo hefur hugmynd um gjaldtöku á ferðamönnum verið í umræðunni. Ég held að það sé ekki spurning hvort heldur hvenær við förum að rukka þá. Íslenskir ferðamenn eru vanir gjaldtöku víða um heim. Þetta væri ekki sjokk fyrir útlendinga sem hingað koma. Grindavíkurvegurinn er dæmi um veg sem þolir ekki bið á því að eitthvað verði gert. Umferð um Grindavíkurveg hefur aukist mjög mikið undanfarin ár. Þegar fjöldi bíla á vegi er orðinn svona mikill þá aukast mjög mikið líkurnar á að fari ökumaður yfir á rangan vegarhelming þá lendi hann á öðrum bíl. Það er því brýnt að aðgreina gagnstæðar aksturstefnur til dæmis með víravegriði en þannig yrði hægt að koma í veg fyrir framanáakstur. Forráðamenn Grindavíkurbæjar telja hins vegar veginn ekki nógu breiðan og góðan til þess og segja brýnt að ráðist verði í framkvæmdir og langbest sé að tvöfalda veginn. En raunhæft væri að byrja á 2+1. Umræða um Grindavíkurveg hefur náð hámæli í kjölfar annars banaslyss þar á þessu ári. Fólk á Suðurnesjum tók sig til og lokaði Reykjanesbrautinni fyrir tæpum tveimur áratugum og notaði þá umræðu og kraft sem til varð - til að þrýsta á að framkvæmdir við tvöföldun færu í gang en málið hafði verið í umræðunni á Alþingi í mörg, mörg ár, án þess að nokkuð gerðist. Hlutir fóru að gerast þegar almenningur tók til óspilltra málanna. Nú hefur sú umræða komist á kreik að réttast væri að loka brautinni aftur og þannig að bílar kæmust ekki heldur til og frá Grindavík. Forsvarsmenn Stopp hópsins sem hefur staðið vaktina í samgöngumálum á Reykjanesbraut eru smeykir við að fara þá leið og vilja nota þá aðferð sem hefur virkað vel hjá þeim, að vinna málið með umræðu og viðræðum við stjórnvöld. Undir það má taka. Þó svo að lokunin hafi virkað á sínum tíma þá er nokkuð ljóst að hún myndi ekki gera það á sama hátt núna. Það eru allir upplýstir um nauðsyn þess að hjóla í málin og samgönguráðherra sagði í fjölmiðlum í vikunni að það þyrfti að gera einhvers konar bráðabirgðaframkvæmdir á Grindavíkurvegi. Slíkar framkvæmdir eru komnar af stað á Reykjanesbraut og tvö hringtorg frá Fitjum í Njarðvík að flugstöðinni eru í hönnun og þeirri vinnu lýkur á næstunni, klára á þessi torg á þessu ári. Hér hefur ekki verið rætt um kaflann frá Hvassahrauni og inn í Hafnarfjörð. Hann þolir heldur ekki bið. Nú reynir á stjórnvöld og ráðherra. Það er ekki hægt að bíða lengur.
TIL SÖLU Skemmtilegt tækifæri fyrir duglegt fólk. Söluturninn Tjarnagrill er til sölu ásamt húsnæði. Nú er að ganga í garð besti tími í þessum rekstri miklir möguleikar fyrir hendi. Upplýsingar veitir Þórður á staðnum.
TJARNAGRILL Tjarnabraut 24 // Njarðvík
Hrikalega öflugur: Arnar er ekki nema 4 til 5 mínútur upp fjallið ef færðin er góð en hann notast alltaf við göngustafi á ferðum sínum. Hann lætur ekki veður stoppa sig og pakkar góðu nesti í lengri ferðum. VF-Mynd: Eyþór Sæm.
HERRA ÞORBJÖRN:
GENGUR BÆJARFJALLIÐ OFT Á DAG ●●Arnar Már Ólafsson missti 50 kíló eftir að hann fór að stunda göngur Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is
Það verður seint sagt að Grindvíkingurinn Arnar Már Ólafsson sitji auðum höndum. Fyrir sex árum síðan hóf hann að stunda göngur. Þannig hefur hann umturnað lífi sínu og bætt heilsu sína til muna. Árið 2010 var Arnar rétt rúm 130 kg. Nú eftir að hafa gengið Þorbjörninn nánast sundur og saman og Reykjanesið endilangt, er hann um 50 kílóum léttari. Arnar gengur aðallega á Þorbjörn, bæjarfjallið fallega. Hann er ekki nema nokkrar mínútur að skokka upp fjallið og suma daga fer hann oft á dag. Einn daginn fór hann 15 sinnum upp fjallið en nafn hans er orðið ansi áberandi í gestabókinni á toppi fjallsins. „Það er smá pása hjá mér í bókinni. Þannig að ég klári nú ekki enn eina bókina,“ segir Arnar léttur í lundu. „Einhvers staðar verður maður að byrja. Finna það sem manni finnst skemmtilegt. Ég hugsaði mér að nota náttúruna enda er hún yndisleg. Af
hverju ekki að nýta þessa náttúru sem við eigum hérna í Grindavík, þetta er algjör paradís.“ Arnar ætlar sér stærri hluti hvað göngur varðar og langar hann mikið til þess að ganga Laugarveginn - Þórsmörk og Landmannalaugar. Arnar segist ekki vera nema 4 til 5 mínútur upp fjallið ef færðin er góð en hann notast alltaf við göngustafi á ferðum sínum. Hann lætur ekki veður stoppa sig og fer út að ganga í hvaða aðstæðum sem er. „Þetta er bara hugarfar. Mér finnst aldrei eins og það sé vont veður á Íslandi,“ segir göngugarpurinn. Málið sé bara að klæða sig vel og taka með sér kakó og nesti og rölta upp á næsta fjall. Þetta er ekki flóknara en það. Arnar segir að honum líði nánast eins og hann sé veikur ef hann kemst ekki í göngu. „Þá er ég alveg ónýtur og slappur. Þetta er orðin hálfgerð fíkn. Matarfíknin er farin og hreyfifíknin tekin við,“ segir þessi öflugi strákur og hlær.
Arnar, sem er 23 ára, starfar sem húsvörður í Hópsskóla. Hann er einnig liðsstjóri hjá meistaraflokki Grindavíkur í fótboltanum þar sem hann leggur mikinn metnað í starfið og er jafnan mættur til þess að undirbúa kappleiki nokkrum tímum á undan öðrum.
Mokaði innkeyrslur Grindvíkinga
Það væri nær að virkja orkuna úr Arnari en á dögunum tók hann sig til og mokaði fjöldann allan af innkeyrslum og gangstígum hjá bæjarbúum. Þar lá heill vinnudagur í valnum og fjölmargir þökkuðu Arnari fyrir hjálpina á samfélagsmiðlunum. Flestar helgar er Arnar á ferðinni. Síðustu helgi pakkaði hann góðu og kraftmiklu nesti og gekk samtals í 16 klukkustundir þá helgina víða um Reykjanesið. Hann stefndi svo á að ganga 20 tíma helgina eftir að hann hitti blaðamann Víkurfrétta þannig að aldrei er dauð stund hjá Arnari. Sjáið göngugarpinn í Sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld kl. 20:00 á Hringbraut.
Störf í boði í Reykjanesbæ hjá Urta Islandica við pökkun Urta Islandica er ölskyldufyrirtæki í örum vexti, sem framleiðir jurtasalt, jurtate og jurtasýróp ásamt sultum úr íslenskum hráefnum. Í boði eru framtíðarstörf fyrir rétta aðila við pökkun á framleiðsluvörum í nýrri og glæsilegri starfsstöð okkar að Básvegi 10 í Reykjanesbæ.
Vinnutími er frá 9.00 – 17.00 Hlutastarf kemur vel til greina Helstu kröfur okkar til þín eru stundvísi, snyrtimennska, handlagni, tölvufærni, íslenskukunnátta og geta unnið sem hluti af teymi. Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, sími 421 0002, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www. vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Verið velkomin að senda umsókn með ferilskrá á urta@urta.is fyrir 17. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Ríkarður M. Ríkarðsson í síma 8218290.
MENNINGARVIKA GRINDAVÍKUR 11. - 19. MARS
8
VÍKURFRÉTTIR
Svaka stuð hjá Reykjanesbæ
LEIKSTJÓRI ÞORSTEINN BACHMANN
NÆSTU SÝNINGAR: FIMMTUDAGURINN FÖSTUDAGURINN SUNNUDAGURINN MIÐVIKUDAGURINN
9.MARS 10.MARS 12.MARS 15.MARS
MIÐAPANTANIR Í SÍMA 421-2540
MIÐAVERÐ 3.000KR
FRUMLEIKHÚSIÐ, VESTURBRAUT 17 ALLAR SÝNINGAR HEFJAST KL.20.00 ÓSÓTTAR MIÐAPANTANIR SELDAR 15 MÍN FYRIR SÝNINGU AFGREIÐSLA MIÐA HEFST KLUKKUTÍMA FYRIR SÝNINGU HÖFUNDUR TÓNLISTAR ALAN MENKEN
BYGGT Á KVIKMYND EFTIR ROGER CORMAN, HANDRIT EFTIR CHARLES GRIFFITH.
HÖFUNDUR HANDRITS OG TÓNLISTARTEXTA HOWARD ASHMAN
ALLTAF PLÁSS Í B ÍLNUM
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
SUÐURNES - REYK JAVÍK SÍMI: 845 0900
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
ATVINNA Starfsmenn óskast á Básinn. 2-3-2 vaktakerfi, 100% starf.
Æskilegt að umsækjendur séu ekki yngri en 18 ára. Umsóknareyðublöð á staðnum
Básinn
■■Það var mikið stuð og mögnuð stemmning á árshátíð Reykjanesbæjar en hún fór fram í Hljómahöllinni nýlega. Boðið var upp á skemmtilegar veitingar og nokkrir landsliðsmenn úr skemmtanabransanum mættu á svæðið. Gestir voru afar ánægðir með hvernig til tókst hjá Hljómahallarfólki og eins og sjá má á myndunum var fjörið mikið.
fimmtudagur 9. mars 2017
MOSS HOTEL LAVA COVE
HÖFUM OPNAÐ FYRIR UMSÓKNIR Bláa Lónið opnar í haust nýja heilsulind, hágæða hótel og veitingastað þar sem áhersla verður lögð á einstaka upplifun gesta. Leitin að metnaðargjörnu fólki til að taka þátt í þessu ævintýri er nú formlega hafin.
NOW ACCEPTING APPLICATIONS In autumn, 2017, Blue Lagoon will be opening an underground spa, a 62-room luxury hotel, and a signature restaurant. The search for ambitious individuals to take part in this adventure is officially on. EN
IS
STÖRF Í BOÐI:
AVAILABLE POSITIONS:
- Yfirmaður Concierge þjónustu
- Yfirmaður gestamóttöku - Gestamóttaka
- Concierge manager
- Reception manager
- Concierge þjónusta
- Concierge
- Receptionists
- Einkaþjónn
- Yfirmaður herbergisþrifa
- Butler
- Housekeeping manager
- Farangurs- og gestaþjónusta
- Herbergisþrif
- Luggage and guest services
- Housekeeping
- Bílastæðaþjónusta
- Ræstingar
- Valet services
- Cleaning crew
Umsóknir og nánari upplýsingar á bluelagoon.is/atvinna eða í síma 420 8800 Umsóknarfrestur er til 25. mars nk. Frábær starfsandi Great team spirit
Góð fríðindi Good benefits
Þjálfun og fræðsla Training provided
For more info and applications go to careers.bluelagoon.com or call 420 8800 Application deadline is March 25 Rútuferðir til og frá vinnu Bus rides to and from work
2-2-3 vaktavinna eða dagvinna 2-2-3 shift or day shift
Gæðavara á
LÆGRA VERÐI
100kr
398
498
TRESemmé sjampó og hárnæring 500 ml - Verð áður 498 kr
BKI Kaffi Classic, 500 g
verðlækkun
kr. 500 g
kr. 500 ml
NÝTT Í BÓNUS
259
298
69
kr. 55 g
kr. 150 g
kr. 330 ml
Barebells Próteinbar 55 g, 3 tegundir
Engin
Egils Kristall 330 ml, 2 teg.
Kolvetni
H-Berg Piparmöndlur 150 g
Engin
Kolvetni
249
169
Nocco BCAA Orkudrykkur 330 ml, 4 teg.
Powerade Zero 591 ml, 3 teg.
kr. 591 ml
kr. 330 ml
Verð gildir til og með 12. mars eða meðan birgðir endast
Grísakjöt af
NÝSLÁTRUÐU ÍSLENSKT Lambakjöt
1.398 kr. kg
698 kr. kg
SS Lambalæri Bláberjakryddlegið, ferskt
Ali Grísabógur Ferskur
GOTT VERÐ Í BÓNUS
Ódýr
a l s i e v u Pizz
359
198
Bónus Pepperoni 153 g
Bónus Samlokuskinka 237 g
kr. 153 g
198 kr. 400 g
SAMA VERd
Wewalka Pizzadeig Ferskt, 400 g
ÍSLENSK
kr. 237 g
um land allt
T Nautgripagúlla
FERSK
s
nanbrauð
259 kr. 75 g
1.998 kr. kg
298
Bónus Klettasalat 75 g
Kjarnafæði Nautgripagúllas Ferskt
Stonefire Nanbrauð Ferskt, 2 teg., 250 g
kr. 250 g
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00
12
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. mars 2017
Söguganga á Safnahelgi
Viðar Oddgeirsson jarðsunginn Viðar Oddgeirsson, fréttaritari og starfsmaður RÚV var jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju sl. þriðjudag. Fjölmenni var við útförina en sr. Karl Matthíasson jarðsöng. Kór Keflavíkurkirkju söng við útförina. Viðar starfaði lengi sem fréttaritari RÚV á Suðurnesjum og var duglegur að safna margvíslegu myndefni sem tengist svæðinu. Á Byggðasafni Reykjanesbæjar eru um 5000 spólur
með lifandi myndefni frá Suðurnesjum sem Viðar hafði unnið undanfarna áratugi. Síðustu sextán árin starfaði Viðar sem yfirmaður tæknisviðs fréttastofu RÚV. Viðar, sem var sextugur, lætur eftir sig tvo syni, fimm barnabörn og sambýliskonu. Nánir samstarfsfélagar af RÚV og félagar hans úr stuðningsmannaklúbbi enska knattspyrnuliðsins Man. City báru kistu hans við útförina.
ATVINNA Okkur hjá Kef Restaurant vantar þjóna í vinnu, starfshlutfall er 50% gæti hentað vel með annari vinnu eða með skóla. Upplýsingar veittar á jenny@kef.is
Vatnsnesvegi 12 // 230 Reykjanesbæ // 420 7011
FAGLEG, TRAUST OG PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA VIÐ BJÓÐUM MEDISMART RUBY BLÓÐSYKURMÆLA, STRIMLA, BLÓÐHNÍFA OG NÁLAR FRÍTT FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ SKÍRTEINI FRÁ TR. MJÖG EINFALDUR Í NOTKUN, STÓR SKJÁR, LÉTTUR OG HANDHÆGUR - „No coding“ þarf ekki að núllstilla - Þarf mjög lítið magn til mælinga, aðeins 0,6µl - Mælir blóðsykur á bilinu 1.1 - 35 mmol/L - Mæling tekur aðeins 5 sek. - Geymir 480 mælingar í minni - Hægt að tengja við tölvu Apótek Suðurnesja leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarksverði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.
Hringbraut 99 - 577 1150
Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.
Magnús Kjartansson mun segja sögur úr tónlistarlífinu í Keflavík.
Systraleiðsögn um Úlfatíma
■■Í tilefni Safnahelgar á Suðurnesjum verður söguganga frá Bókasafni Reykjanesbæjar, laugardaginn 11. mars klukkan 13.00. Rannveig Lilja Garðarsdóttir leiðsögumaður og starfsmaður Bókasafnsins mun leiða gönguna. Gengið verður frá Bókasafni Reykjanesbæjar að Rokksafni Íslands. Stoppað verður á nokkrum vel völdum stöðum og fjallað um tónlistarmenn sem búa eða hafa búið í Keflavík. Gengið verður inn í Gamla bæinn en þar mun Magnús Kjartansson hitta hópinn og segja sögur úr tónlistarlífinu í Keflavík. Magnús var m.a. meðlimur í hljómsveitinni Trúbrot. Júlíus Guðmundsson, sonur Rúnna Júll, hittir hópinn við Skólaveg þar sem hljóðverið Geimsteinn er staðsett. Þá verður gengið að minningarsteini Krossins þar sem Vignir Bergmann mun taka á móti hópnum. Gangan endar í Rokksafni Íslands þar sem göngugörpum verður boðið að skoða sýningu Björgvins Halldórssonar - Þó líði ár og öld - en frítt verður á safnið þessa helgi. Allir hjartanlega velkomnir og ekkert þátttökugjald!
Valgerður Guðmundsdóttir hefur umsjón með Safnahelgi á Suðurnesjum. Hún segir fjölbreytileika safna á Suðurnesjum einstakan á ekki stærra svæði.
■■S u n n u d a g i n n 1 2 . m a r s klukkan 15:00 taka þær systur Sara og Svanhildur Vilbergsdætur á móti gestum á sýningu sinni ÚLFATÍMI í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duus Safnahúsum. Titill sýningarinnar er sóttur í smiðju sænska kvikmyndaleikstjórans Ingmar Bergman sem talaði um Úlfatímann sem tímann milli nætur og dagrenningar, þegar flestir deyja, svefninn sé hvað dýpstur og martraðir sem raunverulegastar. Þá sæki mestur ótti að þeim sem ekki geti sofið og bæði draugar og drýsildjöflar fara mikinn. Þær systur eru þekktar fyrir litskrúðug verk sín sem segja endalausar sögur, bæði þessa heims og annars og nú bregður við nýjum tóni sem ekki hefur sést áður. Sara og Svanhildur mála sem fyrr saman, sömu verkin og á sýningunni Úlfatími má sjá 20 olíuverk sem flest eru ný og hafa ekki sést áður. Sýningin stendur til 23. apríl. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson. Leiðsögnin er á dagskrá Safnahelgar á Suðurnesjum sem stendur laugardag og sunnudag með ókeypis aðgangi að söfnum og fjölbreyttri dagskrá. Nánari upplýsingar á safnahelgi.is
Spennandi dagskrá á Safnahelgi ●●Viðburðir í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða í níunda sinn upp á sameiginlega dagskrá um næstu helgi, 11. til 12. mars. „Markmiðið hefur frá fyrstu tíð verið að kynna fyrir landsmönnum hin fjölbreyttu söfn og sýningar sem sveitarfélögin á Suðurnesjum bjóða upp á. Þetta er liður í menningarferðaþjónustu svæðisins og upplagt fyrir íbúa næsta nágrennis, svo sem á höfuðborgarsvæðinu, að renna í bíltúr hingað suður eftir um helgina og upplifa eitthvað af því fjölmarga sem hér verður í boði,“ segir Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar sem umsjón hefur með Safnahelginni. Á dagskránni eru alls kyns sýningar, tónleikar, fyrirlestrar og margs konar uppákomur. Þá mun list- og handverksfólk einnig vera með sölu á munum sínum. Söfn, safnvísar og sýningar nálgast annan tuginn og
segir Valgerður fjölbreytni safnanna í raun einstaka á ekki stærra svæði. „Fólk getur kynnst sögunni frá því fyrir landnám og til okkar tíma, margvíslegum atvinnuháttum, listum og náttúru,“ segir hún. Sjósókn og vinnsla sjávaraflans verður kynnt á þremur söfnum í þremur mismunandi bæjarfélögum; Kvikunni í Grindavík, Byggðasafninu í Garði og Bátasafninu í Duus Safnahúsum. Náttúran er áberandi í Þekkingarsetri Suðurnesja og í Gestastofu Reykjaness jarðvangsins í Duus Safnahúsum en í Duus Safnahúsum eru átta sýningarsalir með fjölbreyttum sýningum um sögu, listir og náttúru. Óhætt er líka að nefna Slökkviliðsminjasafn Íslands í Safnamiðstöðinni í Ramma og sýningu Björgvins Halldórssonar á Rokksafninu í Hljómahöllinni. Söguganga um Bítlabæinn Keflavík verður farin á vegum Bókasafns Reykjanesbæjar og Pokemon sýning verður á Bókasafni
Sandgerðis. Tvö einkasöfn verða opin almenningi í Garðinum af þessu tilefni og tvær ljósmyndasýningar í Vogunum. Menningarvika Grindavíkur hefst þessa sömu helgi og þar verður fjöldi viðburða og sýninga í gangi um allan bæ. Þar má meðal annars nefna Guðbergsstofu og Jarðorkusýninguna í Kvikunni og listsýningar á Bókasafninu, Salthúsinu og á fleiri stöðum. Íbúar Suðurnesja eru að sjálfsögðu líka hvattir til að koma á Safnahelgina og endilega að taka með sér gesti. Ókeypis verður inn á öll söfnin um Safnahelgi og á þá viðburði sem á dagskránni verða nema annað sé tekið fram. Sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum hafa unnið sameiginlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verkefnið stutt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja. Sjá má alla dagskrána á safnahelgi.is.
SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM
DAGANA 11. -12. MARS ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN
Garður
SÓKNARÁÆTLUN SUÐURNESJA
Sandgerði Reykjanesbær Keflavíkurflugvöllur
Reykjanesbraut
Vogar
Hafnir
Suðurstrandarvegur Reykjanestá
Grindavík
Sjá dagskrá á safnahelgi.is
SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 11. -12. MARS
Garður
ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN
Grindavík
Reykjanesbær
Verslunarmiðstöð
Söfn og setur
Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 10:00-18:00. Heilsuleikskólinn Krókur, Leikskólinn Laut og Grunnskóli Grindavíkur sýna verk nemenda sinna.
Kvikan Einkasafn Ásgeirs Hjálmarssonar í græna bragga
Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 11:00-17:00. Safnahelgi á Suðurnesjum. Í tilefni Safnahelgar á Suðurnesjum er ókeypis á öll söfn, þar á meðal Kvikuna. Allir velkomnir á opnunartíma.
Hvar: Skagabraut 17 í Garði. (Á horni Skagabrautar og Nýjalands) Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 12:00 – 17:00.
Duus Safnahús Hvar: Duusgötu 2-8, Keflavík. Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 12:00 – 17:00. www.duusmuseum.is
Byggðasafnið á Garðskaga opið
7 ólíkar sýningar í húsunum
Hvar: Út á Garðskaga. Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 12:00 – 17:00.
Bátasalur: Bátafloti Gríms Karlssonar Rúmlega 100 líkön af bátum úr skipaflota landsmanna sem Grímur Karlsson fyrrverandi skipstjóri hefur smíðað. Viðburður: 11. mars kl. 15:00. Félag harmonikkuunnenda á Suðurnesjum leikur sjómannalög.
Salthúsið
Einkasafn Hilmars Foss Hvar: Iðngörðum 2 í Garði. Opnunartími: Laugardag og sunnudag frá kl. 12:00 – 17:00. Gengið inn á hlið hússins, í portinu.
Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 12:00 - 21:00. Helga Kristjánsdóttir bæjarlistamaður Grindavíkur með sýningu í Salthúsinu. Laugardag kl. 21:00. Blítt og létt hópurinn frá Vestmannaeyjum með tónleika. Sunnudag kl. 15:00. Listamannaspjall og leiðsögn Helga Kristjánsdóttir.
Listasalur: Úlfatími. Listasafn Reykjanesbæjar sýnir málverk eftir systurnar Söru og Svanhildi Vilbergsdætur. Þær systur eru þekktar fyrir litskrúðug verk sín sem segja endalausar sögur, bæði þessa heims og annars.
Bókasafn
Viðburður: 12. mars kl. 15.00. Leiðsögn listakvennanna Söru og Svanhildar.
Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 10:00-14:00. Skapandi skrif, námskeið. Skráning fyrir 10. mars á bjorg@grindavik.is.
Gryfjan: Heimilið „Heimilið“ sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar. Á sýningunni er lögð áhersla á vinnuna á heimilinu á tímabilinu 1930-1980 . Viðburður: 11. og 12. mars kl. 14:00 -16:00. Safnstjórinn tekur á móti gestum á sýningunni.
Kvennó Opnunartími: Laugardag kl. 10:00-16:00. Handverk og hönnun, námskeið. Skráning fyrir 10. mars á bjorg@grindavik.is.
Bíósalur: Íslensk náttúra Verk í eigu Listasafns Reykjanesbæjar sem spanna yfir 100 ára sögu náttúrumyndlistar á Íslandi. Þarna má sjá fjölbreytt verk eftir ýmsa listamenn m.a. Kjarval og Ásgrím Jónsson.
Greip Skólabraut 8
Gestastofa Reykjanes UNESCO Global Geopark Sýning um myndun og mótun Reykjanesskagans, lífríki og náttúrufari. Reykjanes Geopark er á jarðvangaskrá UNESCO ásamt 119 öðrum svæðum í heiminum. Á vegum Gestastofu Reykjanes verða sýndar myndir af einstakri náttúru og menningarlífi þessara svæða alla helgina.
Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 14:00-16:00. Opnar vinnustofur handverksfólks í Greip.
Víðihlíð Ævintýragarðurinn í Garði Hvar: Urðarbraut 4. Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 12:00 – 17:00.
Opnunartími: Laugardag kl. 15:00. Blítt og létt hópurinn úr Vestmannaeyjum heimsækir Víðihlíð.
Framsóknarhúsið Víkurbraut 27 Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 14:00-17:00. MÆÐGUR SÝNA VERK SÍN. Vigdís Heiðrún Viggósdóttir og Arís Eva Vilhjálmsdóttir.
www.safnahelgi.is
Grindavíkurkirkja Opnunartími: Laugardag kl. 17:00. Formleg setning Menningarviku 2017.
Fish-House Bar&Grill Opnunartími: Laugardag kl. 00:00. 80s partý sem enginn annar en Geir Flóvent stýrir.
Stofan: Ást á íslenskri náttúru Ljósmyndasýning frá Reykjanesi eftir Oddgeir Karlsson og grjót og fuglar úr safni Áka Gränz. Myndasýning á tjaldi frá jarðvöngum víða um heim. Miðloft: Þyrping verður að þorpi Grunnsýning Byggðasafns Reykjanesbæjar á Miðlofti í Bryggjuhúsi þar sem stiklað er á stóru um sögu svæðisins frá níundu öld til miðrar síðustu aldar.
SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 11. -12. MARS
helli í Gróf í Keflavík. Hún býður gestum og gangandi að heimsækja sig í hellinn. Viðburður: 11. og 12. mars kl. 12.00-17.00. Börn geta komið við í Duus Safnahúsum og fengið skessublöðru og þrautabækling.
ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN
Sandgerði Bókasafn Sandgerðis Hvar: Grunnskólanum í Sandgerði. Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 13:00 17:00. Pokemon sýning Ásdísar Helgadóttur. Stórt safn Pokemon dýra, mjúkra og harðra.
Slökkviliðssafn Íslands Rokksafn Íslands Hvar: Hljómahöll, Hjallavegi 2, Ytri-Njarðvík Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 11:00 – 18:00. www.rokksafn.is Rokksafn Íslands er nýtt safn um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi. Þar er saga tónlistar á Íslandi sögð allt frá árinu 1830 til dagsins í dag. Á safninu er að finna tvær sérsýningar um íslenska tónlistarmenn. Önnur sýningin fjallar um Pál Óskar Hjálmtýsson og ber heitið Einkasafn poppstjörnu og hin fjallar um Björgvin Halldórsson og ber heitið Þó líði ár og öld.
Hvar: Safnamiðstöðin Rammi, Seylubraut 1, Innri-Njarðvík. Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 13.00-17.00. Sýning þar sem aldarlöng saga slökkviliða á Íslandi er rakin eins og hún birtist í bílum og tækjabúnaði auk fjölda ljósmynda frá þessari sögu. Sýningin var sett upp og er rekin af slökkviliðsmönnum í sjálfboðastarfi. Nú fer hver að verða síðastur til að sjá þessa sýningu því hún verður bráðlega tekin niður.
Handverk, vinnustofur
Gallerí Svarta pakkhúsið Hvar: Hafnargötu 2, Keflavík. Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 13:00 – 17:00. Alls kyns handverk og listmunir eftir íbúa á svæðinu á góðu verði. Gler, leir, prjón, fatnaður, skrautmunir, skartgripir o.fl.
Vogar
Huldir heimar hafsins - Ljós þangálfanna: Falleg sýning þar sem vísindalegum fróðleik um mikilvægi hafsins og þær hættur sem að því steðjar, er fléttað saman við ævintýraheim þangálfanna.
Hvar: Ráðhúsinu Tjarnargötu 12, Keflavík. Opnunartími: Laugardag kl. 11.00-17.00. bokasafn@reykjanesbaer.is
Ljóð í leiðinni Ljóðum verður dreift víðs vegar um bæinn þar sem við þurfum að bíða eða fáum kyrrðarstund; t.d. í heita pottinum, í röðinni að kassanum í búðinni, í strætó o.s.frv.
Skessan í hellinum Hvar: Svarti hellir við smábátahöfnina í Gróf, Keflavík. Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 10:00 – 17:00. www.skessan.is Skessan úr bókunum Sigga og Skessan, er flutt til Reykjanesbæjar og hefur komið sér fyrir í Svarta
Hvar: Garðvegi 1. Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 13:00 - 17:00. Fjórar sýningar í húsinu. Heimskautin heilla: Glæsileg sýning sem fjallar um líf og dauða franska vísindamannsinns og heimskautafarans Jean-Baptiste Charcot.
Bókasafn Reykjanesbæjar
Söguganga með tónlistar ívafi Söguganga frá Bókasafni Reykjanesbæjar að Rokksafni Íslands. Fjallað verður um tónlistina og áhrif hennar á bæjarbraginn. Hópurinn hittir Júlíus Rúnarsson en hann býr í húsi föður síns; Rúnna Júll. Einnig stoppar hópurinn við æskustöðvar Magnúsar Kjartanssonar en hann hittir hópinn og segir frá. Viðburður: 11. mars kl.13.00. Sögugangan leggur af stað frá Bókasafninu.
Þekkingarsetur Suðurnesja
Náttúrugripasýning: Lifandi sjávardýr og ýmis uppstoppuð dýr sem gaman er að skoða. Sýningin Garðvegur 1 – Arfur breyttrar verkmenningar: Áhugaverð saga hússins á Garðvegi 1 í máli og myndum.
Sundlaugin Vogum Hvar: Hafnargata 17. Opnunartími: Laugardagur kl. 11:00 – 15:00. Wipeoutbraut í sundlauginni – Brjálað fjör fyrir alla.
Ljósmyndasýning í félagsmiðstöð Opnunartími: kl. 13:30 – 15:30. Myndir af mannlífi og náttúru í Vogum fyrr og nú.
Álfagerði Hvar: Akurgerði 25. Opnunartími: Sunnudagur kl. 15:00. Vogar í máli og myndum – horft til baka Gamli tíminn rifjaður upp. Farið yfir myndir úr myndasafni minja- og sögufélagsins og rætt um þær. Allir velkomnir.
Listatorg Hvar: Vitatorgi. Handverk eftir heimafólk. Opnunartími: Laugardag og sunnudag kl. 13:00 - 17:00.
www.safnahelgi.is ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN
VERIÐ VELKOMIN Á SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 11. -12. MARS
SÓKNARÁÆTLUN SUÐURNESJA
fimmtudagur 9. mars 2017
17
VÍKURFRÉTTIR
GAMLIR MUNIR Í BRAGGA ÁSGEIRS ●●70 ára ný uppgerður bíll ● meðal muna á sýningu á Safnahelgi
Ásgeir Hjálmarsson kom Byggðasafninu í Garði á koppinn á sínum tíma. Eftir að hann lét af störfum hefur hann haldið áfram að safna munum í bragga í Útgarði. Nú um Safnahelgi verður bragginn opinn fyrir gesti og gangandi. „Ég veit nú ekki af hverju ég byrjaði að safna munum en eftir að ég hætti hjá Byggðasafninu hélt ég áfram að safna og er hérna kominn með annað safn í bragganum. Maður losnar ekkert við það að safna,“ segir Ásgeir. Safnið er í tveimur samliggjandi húsum í Út-Garði. Áður fyrr þurrkaði Oddur Jónsson, afi Ásgeirs, fisk í og við húsin. „Hérna byrjaði ég að vinna ásamt fleiri krökkum, líklega sex til átta ára gamall.“ Það er því óhætt að segja að húsin eigi sér langa og skemmtilega sögu. Á safni Ásgeirs kennir ýmissa grasa. Þar eru ýmis áhöld og tæki tengd bú-
skap, heimilishaldi, bílum og bátum. Ásgeir er nýbúinn að gera upp sjötíu ára gamlan bíl sem eiginkona hans, Sigurjóna Guðnadóttir, vann í happdrætti þegar hún var þriggja ára. Bíllinn er af gerðinni Renault Juvaquatre og árgerð 1946. Bíllinn er glæsilegur að sjá eftir yfirhalningar síðustu missera. Nokkrir slíkir bílar voru fluttir til landsins á 5. áratug síðustu aldar. Þeir voru geymdir við bæinn Haga í Vesturbæ Reykjavíkur og hlutu því viðurnefnið Hagamýs. Bíll Sigurjónu var aftur á móti alltaf kallaður Tíkallinn því happdrættismiðinn kostaði tíu krónur.
Ásgeir hefur safnað munum í áratugi. Hann stofnaði Byggðasafnið í Garði á sínum tíma. Eftir að hann lét af störfum þar hefur hann sjálfur safnað munum sem hann sýnir nú um Safnahelgi. VF-mynd/dagnyhulda
Sýningin verður opin á laugardag og sunnudag á milli klukkan 12:00 og 17:00 og eru allir velkomnir. Húsin eru við Skagabraut 17, á horni Skagabrautar og Nýjalands.
Húsin eiga sér langa sögu en afi Ásgeirs rak þar fiskþurrkun og byrjaði Ásgeir að vinna hjá honum ungur að árum.
Sigurjóna Guðnadóttir og Ásgeir Hjálmarsson í bílnum sem hún vann í happdrætti þriggja ára gömul. Hann verður meðal muna á sýningunni um helgina.
Borðið og stólarnir á myndinni voru í Tónlistarskólanum við Austurgötu en prýða nú sýninguna „Heimilið“ í Duus safnahúsum. Á miðju borði er öskubakki líkt og tíðkaðist í kringum 1970 og kínverskt postulín. VF-mynd/dagnyhulda
Sigrún Ásta Jónsdóttir, safnstjóri, tekur á móti gestum á milli klukkan 14:00 og 16:00 á laugardag og sunnudag. Gestir geta komið með myndir eða gripi með sér til að fræðast um eða til að fræða aðra. VF-mynd/dagnyhulda
Sýning helguð heimilinu ●●Heimilismunir frá tímabilinu í kringum 1970 í forgrunni Nilfisk-ryksuga, prjónaður glímubúningur, öskubakki úr lituðu gleri, Rafha-eldavél og handþeytari í krukku eru meðal muna á sýningunni „Heimilið“ sem nú stendur yfir í Duus Safnahúsum í Reykjanesbæ. Nú um Safnahelgi getur fólk komið með myndir eða gripi til að fræðast um eða til að fræða starfsfólk safnsins um þá fjölbreyttu sögu sem býr í bæjarfélaginu. Að sögn Sigrúnar Ástu Jónsdóttir, safnstjóra, er
sýningin um heimilið eins og það gæti hafa litið út í kringum árið 1970. „Hér á sýningunni eru ýmsir hlutir sem fólk kannast við. Á þessum tíma voru konur að sauma, prjóna, hekla og búa til mat frá grunni,“ segir hún. Mörg áhaldanna og tækjanna á sýningunni tengjast heimilisiðnaðinum. Á sýningunni eru einnig eldri munir eða allt frá árinu 1930 og til 1980 þó svo að tímabilið í kringum 1970 sé í
forgrunni. Á sýningunni má skoða áhugaverða muni úr saumaskúffu Hrefnu Einarsdóttur í Njarðvík. Þar á meðal er litríkt garn og munir sem hún bjó til, svo sem púði og ullarsokkar. Sigrún Ásta, safnstjóri, tekur á móti gestum á sýningunni á laugardag og sunnudag frá klukkan 14:00 til 16:00.
Atvinna
Nánar inná www.betrithrif.is/fyrirtaekid/laus-storf
garnar snúa ............
orða, t.d. ptast Garð-
ðalskipulagsa letrinu.
18
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. mars 2017
Björg Erlingsdóttir er svið- stjóra frístundaog menningarsviðs Grindavíkurbæjar.
BREYTING Á AÐALSKIPULAGI GARÐS 2013-2030 Auglýsing um lýsingu skipulagsverkefnis Sveitarfélagið Garður hefur ákveðið að vinna að breytingum á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Um er að ræða breytingu á landnotkun við Rósaselstorg og Garðvang, ásamt breytingum á hindrunarflötum flugumferðar. Í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana kynnir Sveitarfélagið Garður lýsingu skipulagsverkefnis. Lýsingin verður aðgengileg á heimasíðu Sveitarfélagsins Garðs, www.svgardur.is. Þess er óskað að fá ábendingar eða athugasemdir við lýsinguna eigi síðar en 9. apríl n.k. Þær skal senda með tölvupósti á skipulagsfulltrúa, jonben@svgardur.is eða á bæjarskrifstofur sveitarfélagsins, Sunnubraut 4, 250 Garður, b.t. skipulagsfulltrúa. Jón Ben Einarsson Skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Garðs
Suðurnesjamagasín Sjónvarps Víkurfrétta hefur fengið nýjan sýningartíma á fimmtudagskvöldum á Hringbraut.
Sagan í aðalhlutverki á Menningarviku Grindavíkur Mikið og fjölbreytt menningarlíf bíður Grindvíkinga og gesta þeirra en vikuna 10. til 19. mars verður haldin Menningarvika þar í bæ. Menningarvika Grindavíkur er nú haldin í níunda sinn og að vanda er dagskráin fjölbreytt. Björg Erlingsdóttir tók við starfi sviðstjóra frístunda- og menningarsviðs hjá Grindavíkurbæ í byrjun desember. Hún kann vel við sig í litlu samfélagi eins og Grindavík. „Hér er sko engin ládeyða og allt á leið fram á við. Grindvíkingar láta í ljós skoðanir sínar og það kann ég vel við,“ segir Björg. „Við erum að fókusa á orðið saga að þessu sinni. Þegar maður hugsar um orðið þá er það svo margt. Hvort sem við tengjum það mannkynssögu, sögu einstaklinga, skáldsögu eða jafnvel sögu Grindavíkur. Eitt af því sem við gerum er að hafa kvöld í Gjánni þar sem Grindvíkingar, innfæddir og aðfluttir koma og segja sína sögu. Þeir eru frá öllum heimsins hornum og þannig verður hægt að fá keim af
ólíkum heimum.“ Forseti Íslands er meðal þeirra sem boðað hafa komu sína á þann viðburð. Sjálf er Björg aðflutt. Hún ólst upp á Akureyri þar sem hún lauk menntaskóla. Hún er með BA-próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands og master ásamt sérnámi í safnafræðum frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Björg hefur undanfarin ár verið sviðsstjóri miðlunarsviðs Listasafns Íslands en áður var hún í sjö ár á Höfn í Hornafirði sem forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. „Menningarlífið í Grindavík er öflugt en það má þó alltaf bæta. Grindvíkingar eru miklir söngmenn að mér sýnist. Þeir eru duglegir að skapa sjálfir og eru ekki alltaf að fá aðkomandi aðstoð í þeim efnum. Það er mikilvægt að maður sé ekki bara þiggjandi heldur gefandi.“ Eins og áður segir er fjölbreytt dagskrá framundan í Grindavík. Handverksmarkaður verður í Gjánni, fyrirlestrar
haldnir í Kvennó og félagsmiðstöðin Þruman mun starfrækja útvarpsstöð. Stjörnufræðingurinn Sævar Helgi skoðar himingeiminn með Grindvíkingum og Sprengju-Kata heimsækir nemendur unglingastigs. Tvær leiksýningar eru í boði fyrir börn og foreldra, önnur er brúðuleiksýningin Íslenski fíllinn sem sýndur verður í Hópsskóla og í Kvennó mætir Kólumbus á ferð sinni um Norðurhöf. Sem fyrr er uppstaðan í Menningarvikunni framlag heimamanna auk þess sem fjöldi landsþekktra listamanna og skemmtikrafta sækja Grindvíkinga heim. Undanfarin ár hefur Menningarvikunni verið vel tekið og Grindvíkingar duglegir að taka þátt og njóta þess fjölbreytta úrvals viðburða sem í boði er. Allir leggjast á eitt við að bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá og eru Grindvíkingar hvattir til að nýta sér tækifærið og fjölmenna á menningarviðburðina.
Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00. Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18.
AFMÆLISDAGAR Í BÚSTOÐ Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22.
Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.
9.-18. MARS
25%
UR AFSLÁTLT RI AF AL RU GJAFAVÖ
FULL F BÚÐ A RUM FRÁBÆ M ÐU TILBO
43%
AFSLÁTTU
R
AF ÖLLUM DREAMWO RLD RÚMUM
TJARNARGÖTU 2 • 230 REYKJANESBÆ • S: 421-3377 WWW.BUSTOD.IS • BÚSTOÐ EHF
LAUNAHÆKKUN MEÐ SÉREIGNARSPARNAÐI ÍSLANDSBANKA
20
VÍKURFRÉTTIR
LAUS STÖRF
FJÖRHEIMAR HOLTASKÓLI HÆFINGARSTÖÐIN
Starfsmaður í eftirskólaúrræði Deildarstjóri einhverfudeildar Hlustastarf við ræstingar
Umsóknum í ofangreint starf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf eða beint á Ráðningavefinn https://reykjanesbaer.hcm.is/storf/. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
fimmtudagur 9. mars 2017
Fyrsta skóflustungan tekin að nýrri ÓB stöð í Reykjanesbæ Fyrsta skóflustunga að nýrri ÓB stöð var tekin síðasta föstudag. Stöðin mun standa við Aðalgötu 60 í Reykjanesbæ. ÓB stöðvar eru sjálfsafgreiðslustöðvar í eigu Olíuverzlunar Íslands hf. en sú fyrsta var opnuð í Hafnarfirði árið 1996. Í dag eru sjálfsafgreiðslustöðvarnar yfir þrjátíu talsins víðsvegar um landið. Áætlað er að nýja stöðin opni við Aðalgötu með vorinu. „Til að byrja með verðum við eingöngu með sjálfsafgreiðslustöð við Aðalgötu í Reykjanesbæ en markmiðið til framtíðar verður að reisa á lóðinni myndarlega Olís þjónustustöð með því vöruboði sem við höfum upp á að bjóða. Vaxandi fjöldi ferðamanna kallar á stækkun á þjónustuneti félagsins og erum við stolt af því að geta stækkað við okkur hér í Reykjanesbæ,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olíuverzlunar Íslands. „Það er mjög ánægjulegt að félagið skuli vera að vaxa og eflast í Reykja-
Jón og Steinar eftir skóflustungu að nýrri stöð.
nesbæ. Hér er mikill vöxtur í ferðaþjónustu og því mikilvægt fyrir okkur að geta mætt þeim vexti með góðri þjónustu en á nýrri stöð verður gott aðgengi fyrir alla viðskiptavini félags-
VIÐBURÐIR
ins hvort heldur sem um einstaklingsbifreiðar eða stærri atvinnutæki sé að ræða,“ segir Steinar Sigtryggson, útibússtjóri Olíuverzlunar Íslands á Suðurnesjum.
Lóð bensínstöðvar minnkar um næstum 4000 fermetra
TÓNLEIKAR LENGRA KOMINNA NEMENDA Í dag kl. 19:30 verða tónleikar lengra kominna nemenda við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar haldnir í Bergi, Hljómahöll. Fjölbreytt og spennandi efnisskrá. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
■■Eigandi fasteignarinnar Heiðartúns 1 í Garði hefur óskað eftir því við skipulags- og byggingayfirvöld í Garði að lóð fasteignarinnar verði minnkuð umtalsvert. Á lóðinni er í dag rekin bensínstöð frá N1 og söluturn. Lóðin er í dag 6.665 fermetrar en óskað er eftir því að hún verði minnkuð niður í 2.718 fermetra eða um 3.947 fermetra, skv. teikningu sem lögð var fyrir skipulagsyfirvöld. Skipulags- og bygginganefnd hefur samþykkt að minnka lóðina eins og óskað var eftir.
NESVELLIR Boðið verður upp á spilabingó og Arnór og félagar flytja tónlist á léttum föstudegi 10. mars kl. 14:00. Allir hjartanlega velkomnir. SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM 11. - 12. MARS Boðið verður upp á fjölbreytta dagsskrá í söfnum í Reykjanesbæ á safnahelgi 11. - 12 mars. Í Duus Safnahúsum eru átta sýningarsalir með mismunandi sýningum, Bókasafn Reykjanesbæjar býður upp á sögugöngu, Rokksafn Íslands er með tvær einkasýningar í gangi og Slökkviliðssafn Íslands verður opið alla helgina. Ókeypis á öll söfnin. Nánari dagskrá er á vefnum http://safnahelgi.is. Garðskagi er vinsæll ferðamannastaður.
Salerniskjarni rís á Garðskaga Hversu
RAFRETTUR BÖL EÐA BLESSUN? MÁLÞING UM RAFRETTUR VERÐUR HALDIÐ Í FJÖLBRAUTASKÓLA SUÐURNESJA MÁNUDAGINN 13. MARS KL. 17.00 TIL KL. 19.00 Málþinginu er ætlað að varpa ljósi á hvort rafrettan sé nýr lífsstíll eða óvægin markaðssetning? Og hvort rafrettur séu undur eða ógn? Fyrirlesarar verða: Guðmundur Karl Snæbjörnsson – Læknir, sérfræðingur í heimilislækningum. Rafrettur bylting í tóbaksvörnum! Lára G Sigurðardóttir, MD. PhD – Læknir og fræðslustjóri Krabbameinsfélags Íslands. Eru rafsígarettur hættulegar?
Að erindum loknum verður opnað fyrir fyrirspurnir úr sal. Fundarstjóri er Anna Taylor forvarnarfulltrúi FS
Óskað hefur verið eftir byggingaleyfi fyrir salerniskjarna sem rísa á í viðbyggingu við byggðasafnið á Garðskaga. Í byggingunni verður einnig starfsmannaaðstaða. Sveitarfélagið Garður sækir um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Byggðasafnið á Garðskaga og samþykkt var á síðasta fundi skipulags- og byggingarnefndar Garðs að fela bygg-
ingarfulltrúa að afgreiða byggingarleyfi vegna framkvæmdanna. Salerniskjarninn verður þannig að hann getur verið opinn þó svo þjónusta á byggðasafninu sé lokuð og nýtist þannig ferðamönnum sem gista á tjaldstæðinu á Garðskaga og hópum sem t.a.m. koma í norðurljósaferðir seint að kvöldi yfir vetrarmánuði.
ATVINNA Starfsmenn óskast í afgreiðslu og lagerstarf á Fitjabakka 2 - 4. Um er að ræða föst störf. Vinnutími frá kl. 8:00 til 18:00. Umsóknareyðublöð eru á staðnum, einnig er hægt að sækja um á steinar@olis.is Æskilegt að umsækjendur séu ekki yngri en 20 ára.
mikils virði er mannslíf? Ungir Píratar á Suðurnesjum álykta að Samgönguráðuneytið og Vegagerðin sýni Íslendingum mikla vanvirðingu með því að draga lappirnar þegar kemur að nauðsynlegum vegaframkvæmdum á Grindavíkurvegi, sérstaklega í ljósi nýlegra atvika þar sem tvær konur hafa misst lífið á sama vegakaflanum á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Grindavíkurvegur er á lista yfir áhættu- og slysamestu vegi landsins. Nú er komið nóg! Öryggi fólks ætti ávallt að vera í fyrirrúmi. Betrumbætur á Grindavíkurvegi hefur verið hávær krafa Suðurnesjamanna undanfarin ár og skömm er að því að ástandið á honum sé enn ábótavant. Mikið af ungum og óreyndum ökumönnum og ferðamönnum, sem hafa í mörgum tilfellum litla sem enga reynslu af veðurfari og vegakerfi okkar, aka veginn daglega og því geta breytingar ekki beðið lengur. Brýnast er að ráðast í tvöföldun vegarins, setja upp viðvörunarskilti og minnka dældir í veginum, algjör lágmarksbreyting er að vegurinn verði lýstur upp. Eitt líf er einu of mikið og til háborinnar skammar að ekki sé vilji til að leggja nauðsynlegt fjármagn í þessar breytingar. Stjórn Ungra Pírata á Suðurnesjum
BÍLABÚÐ BENNA REYKJANESBÆ
Ti lb
2.8 oð 90 .0 0
0
OPEL ZAFIRA TOURER Bensín / Sjálfskiptur / Árgerð: 2015 Ekinn: 60.000 km. Verð áður: 3.290.000 kr.
STÓRGOTT ÚRVAL NOTAÐRA BÍLA Go
1.6lboð 90 .0 0
0
OPEL ASTRA Bensín / Beinskiptur / Árgerð: 2016 Ekinn: 28.000 km.
0
OPEL ADAM Bensín / Beinskiptur / Árgerð: 2015 Ekinn: 30.000 km. Verð áður: 2.290.000 kr.
Ti lb
1.0
1.8 90 .0 0
0
Birt með fyrirvara um mynd og textabrengl
0
CHEVROLET SPARK Bensín / Beinskiptur / Árgerð: 2014 Ekinn: 82.000 km. Verð áður: 1.390.000 kr.
OPEL ASTRA Bensín / Beinskiptur / Árgerð: 2015 Ekinn: 71.000 km. Verð áður: 2.390.000 kr.
2.9lboð 90 .0 0
0
NOTAÐIR BÍLAR Skoðaðu úrvalið á benni.is
Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330
Opnunartímar: Virka daga 10-18 Laugardaga 12-16
0
G
0
CHEVROLET CAPTIVA Dísel / Sjálfskiptur / Árgerð: 2012 Ekinn: 91.000 km. Verð áður: 3.390.000 kr.
1.5lboð 90 .0 0
OPEL CORSA Bensín / Sjálfskiptur / Árgerð: 2015 Ekinn: 84.000 km. Verð áður: 1.890.000 kr.
Ti
T
2.2ilboð 90 .0 0
0
Ti
oð
90 .0 0
2.9lboð 90 .0 0
SKODA OCTAVIA AMBITION TDI Dísel / Sjálfskiptur / Árgerð: 2014 Ekinn: 43.000 km. Verð áður: 3.290.000 kr.
Ti lb
oð
NISSAN DUKE ACENTA 2WD Dísel / Beinskiptur / Árgerð: 2014 Ekinn: 47.000 km. Verð áður: 2.590.000 kr.
Ti
Ti
2.4tt verð 90 .0 0
79ott ver 0. ð 00 0
SUBARU JUSTY S Bensín / Beinskiptur / Árgerð: 2008 Ekinn: 166.000 km.
22
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. mars 2017
Búðardalsfjör í Hljómahöllinni Það er óhætt að segja að tónleikagestir hafi „dillað“ sér og látið hugann reika þegar þeir hlustuðu á nokkur af vinsælustu lögum okkar tíma á tónleikum sem tileinkaðir voru Þorsteini Eggertssyni, textaskáldi og tónlistarmanni, - hinum íslenska Presley. ‘Er ég kem heim í Búðardal’, ’Gvendur á eyrinni‘ og ’Söngur um lífið’ eru með mest leiknu lögum á Íslandi á síðustu áratugum en gestir sem troðfylltu Bergið í Hljómahöllinni fengu líka að heyra mörg fleiri mjög þekkt lög með textum Þorsteins. Þeir voru ánægðir með söng, spil og textaflutning tríósins Dagnýjar Gísladóttur, Elmars Þórs Haukssonar og Arnórs Vilbergssonar. Þetta voru aðrir tónleikar í röðinni Söngvaskáld á Suðurnesjum en fyrstu tónleikarnir voru tileinkaðir Ingibjörgu Þorbergs. Þriðju tónleikarnir
verða í byrjun apríl og þá verður Njarðvíkingurinn Magnús Þór Sigmundsson í sviðsljósinu. Þetta framtak þremenninganna er mjög skemmtilegt. Tónleikar þar sem Elmar syngur lögin á sinn einstaka hátt. Undirleikurinn á píánóið er í höndum Arnórs Vilbergssonar og hann syngur með Elmari í nokkrum lögum. Dagný Gísladóttir er hugmyndasmiðurinn að þessu verkefni og hún er sögumanneskjan. Segir sögu viðkomandi tónlistarmanns og laganna sem flutt eru á tónleikunum. Virkilega skemmtileg framsetning á þessum menningarviðburði. Þrennir tónleikar voru haldnir á síðasta ári og miðað við viðbrögðin má gera ráð fyrir framhaldi. Það er alla vega til enn meiri efniviður í Bítlabænum. Fleiri söngvaskáld og tónlistarséní.
Þorsteinn Eggertsson tók við blómum í lok tónleikanna frá aðstandendum.
Tríóið á bakvið Söngvaskáld: Arnór Vilbergsson, Elmar Þór Hauksson og Dagný Gísladóttir.
REKSTRARSTJÓRI HÚSASMIÐJUNNAR
Í REYKJANESBÆ
Leitum að sterkum leiðtoga í krefjandi stjórnunarstarf
Húsasmiðjan leggur metnað sinn í
Ábyrgðarsvið • Rekstur og stjórnun verslunar • Að framfylgja stefnu fyrirtækisins • Ráðgjöf, þjónusta og sala til viðskiptavina • Tilboðsgerð
starfsmenn Húsasmiðjunnar eru
Hæfniskröfur • Þjónustulund, áhugi og metnaður • Reynsla af rekstri og stjórnun • Reynsla af verslun og þjónustu æskileg • Frumkvæði í starfi og skipulögð vinnubrögð • Menntun sem nýtist í starfi Í boði er • Krefjandi stjórnunarstarf hjá góðu fyrirtæki • Gott og öruggt starfsumhverfi • Góður starfsandi • Rekstrarstjóri tilheyrir hópi lykilstjórnenda fyrirtækisins Byggjum á betra verði
að veita fyrsta flokks þjónustu og hafa gott aðgengi að vörum sínum og starfsfólki. Það sem einkennir eftirfarandi gildi:
Metnaður Þjónustulund Sérþekking
Umsóknir berist fyrir 17. mars n.k. og sendast til atvinna@husa.is
Lína Rut er tilnefnd fyrir myndskreytingu.
Lína Rut tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar ■■Bókin „Þegar næsta sól kemur“ er tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar sem best myndskreytta barnabókin á árinu 2016. Bókin er eftir listakonuna Línu Rut Wilberg í Reykjanesbæ. Bókin kom út fyrir síðustu jól en Lína Rut hafði gengið með hugmyndina að henni í mörg ár. „Þegar næsta sól kemur“ er sjálfstæð saga í sagnaflokknum um Núa og Níu en hér lendir Nía í ævintýrum upp á eigin spýtur og þarf að læra að treysta á sjálfa sig. Lína Rut hefur tileinkað bókina syni sínum sem hafði í bernsku þann hátt á að segja ekki „á morgun“ heldur „Þegar næsta sól kemur.“
FISKTÆKNI ER HAGNÝTT NÁM SEM TEKUR EINUNGIS TVÖ ÁR
VEIÐAR VINNSLA FISKELDI
www.fiskt.is Starfstengt nám á framhaldsskólastigi
Spennandi starfsnám fyrir ungt fólk á aldrinum 16 - 25 ára Grunnnám í fisktækni er hagnýtt tveggja ára nám með fjölbreytta starfsmöguleika. Að námi loknu er einnig opin leið til frekara framhaldsnáms og/eða háskólanáms. Fisktækninámið skiptist í þrjár línur eftir áhugasviði nemenda: veiðar, vinnslu og fiskeldi. Náminu er skipt upp í annir og er önnur hver önn bókleg, en hinar kenndar á völdum vinnustöðum í samræmi við áherslur námsins. Á meðan á námstímanum stendur er mikið um heimsóknir í stofnarnir og fyrirtæki tengdum sjávarútvegi. Farið verður í tvær námsferðir erlendis í samstarfi við samstarfsskóla okkar í Danmörku og Portúgal. Kynnið ykkur námið á Facebook og á heimasíðunni www.fiskt.is Innritun fer fram á Menntagátt á www.menntagatt.is Skólaakstur af Suðurnesjum. Þeir nemendur sem þess óska geta einnig verið skráðir í Fjölbrautaskóla Suðurnesja en taka þá faggreinar námsins og verklega þjálfun samhliða í Fisktækniskóla Íslands.
www.fiskt.is
//
info@fiskt.is
//
412 5966
24
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. mars 2017
Stefán á ýmsa frasa sem hann notar reglulega og vekja kátínu hjá lyftingarfélögum í Massa. Þeirra á meðal eru: Það eru allir jafnir undir stálinu - Stálið gerir engan mannamun - Stálið lýgur ekki - Þú svíkur ekki stálið - Beygðu eða deyðu - Hvað er að þegar ekkert er að? - Koma svo!
ALLIR JAFNIR UNDIR STÁLINU ●●Þríburapabbinn Stefán Sturla varð íþróttamaður UMFN fimmtugur l Sambýlismaður Jóns Páls
Stefán Sturla Svavarsson hefur stundað kraftlyftingar í 40 ár. Hann ól manninn í hinu goðsagnakennda Jakabóli þar sem margir sterkustu menn heimsins voru að æfa á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Þangað mætti hann 17 ára 60 kílóa tittur beint úr frjálsum íþróttum. Honum og Jóni Páli Sigmarssyni varð vel til vina og bjuggu þeir saman um tíma. Stefán tjáði sig opinskátt á um steranotkun sína árið 1984, þar sem hann var hætt kominn vegna ofneyslu. Hefur hann síðan talað fyrir auknum forvörnum varðandi lyfjanotkun. Stefán var fimmtugur kjörinn íþróttamaður UMFN og var þá að toppa. Hann ætlar sér að lyfta þangað til yfir lýkur enda þykir honum fátt skemmtilegra. Stefán er augljóslega mikill íþróttagarpur enda hefur hann afrekað það að verða Íslandsmeistari í eldri flokki í kraftlyftingum, á skíðum og í frjálsum. Fyrsta sambúðin með Jóni Páli Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is
Stefán er reyndar fæddur og uppalinn í Sundahverfinu í Reykjavík en hann fluttist til Reykjanesbæjar fyrir rúmum áratug. Hann er lærður sjúkraliði en starfar sem tollari á Keflavíkurflugvelli. Þegar hann er ekki við vinnu eða að taka á stálinu þá er hann afi og þríburapabbi í fullu starfi. Þríburarnir eru reyndar orðnir hálf fullorðnir og því er afastarfið fyrirferðameira hjá Stefáni.
„Ég hef örugglega verið bullandi ofvirkur. Ég var víst mjög baldinn sem krakki,“ rifjar Stefán upp en hann var afar orkumikill. Hann var þó aldrei í íþróttum fyrr en hann fór að æfa frjálsar íþróttir 16 ára gamall. Hann þótti efnilegur í frjálsum en áhuginn á lyftingum jókst smá saman þangað til hann rataði inn í hið fornfræga Jakaból, þá varð ekki aftur snúið. Honum var vel tekið af jötnum Jakabóls og innan skamms varð hann heltekinn af lyftingum og hætti í frjálsum. Allir sem lyftu í Jakabóli fengu viðurnefni og þar var Stefán engin undantekning. Honum var úthlutað nafninu Spjóti þar sem hann hafði verið að
kasta spjótinu í frjálsum. Nafnið fylgir honum enn í dag. „Þarna voru hrikalegir lyftingamenn og margir sterkustu menn landsins. Þar kynnist ég Jóni Páli og við fórum að æfa saman, borða saman og seinna meir að búa saman.“ Stefáni og Jóni Páli Sigmarssyni varð vel til vina á þessum tíma en þarna voru þeir ungir og einhleypir menn sem lifðu fyrir lyftingarnar. Svo fór að Stefán og Jón urðu sambýlingar í húsi móður Stefáns í Efstasundi í Reykjavík, þar sem hún leigði vanalega út herbergi. Stefán á góðar minningar frá þeim tíma er þeir Jón bjuggu saman en þeir gerðu mest af því að æfa og
borða. „Það var ekki óvanalegt að við elduðum þrjú lambalæri og tvo hryggi í sömu vikunni. Eggjabakkar hurfu ofan í okkur en við drukkum á bilinu 5 til 8 lítra af mjólk á dag,“ rifjar Stefán upp. Hann minnist Jóns sem mögnuðum karakter sem gaman var að vera í kringum. „Það var í eldhúsinu hjá okkur þar sem Jón Páll segir við mig, „Spjóti ég ætla að verða sterkastur í heimi.“ Úr varð að Jón Páll varð sterkastur. Stefán sjálfur stefndi ekki svona hátt. „Ég hafði bara svo rosalega gaman af því að lyfta. Félagsskapurinn var líka stór hluti af þessu. Það er bara eins og ættarmót þegar maður hittir þessa gömlu æfingafélaga. Það er alveg
yndislegt og við hlæjum og flissum yfir gömlum sögum.“
Toppaði um fimmtugt
Stefán er enn að taka á því og hefur sjaldan verið sterkari. „Ég er svaðalega öflugur, ég hreinlega skil það ekki,“ segir Stefán léttur í bragði. Hann setti sér markmið að ná 700 kg í samanlögðu (bekkpressa, hnébeygja og réttstöðulyfta) fyrir fimmtugt. „Ég gerði það fimmtugur og ég gerði það lyfjalaus og með nánast engum fæðubótarefnum. Mér fannst það ákveðinn sigur fyrir mig.“ Stefán fluttist til Reykjanesbæjar fyrir um áratug síðan. Hann fann sér fljótlega athvarf í Massa í íþróttamiðstöð
fimmtudagur 9. mars 2017
25
VÍKURFRÉTTIR
Stefán (t.h.) ásamt Jóni Páli og Herði Magnússyni. Stefán á ógrynni af myndum frá fyrri tíð og margar skemmtilegar af Jóni Páli frá því að þeir bjuggu saman.
Njarðvíkur. „Hér er einhver gamall andi sem ég fíla í botn. Hér eru mjög góðar græjur og mér var afar vel tekið hérna frá fyrsta degi. Hér var mikið af ungu fólki sem gerði mig yngri í anda. Massi er algjör paradís á jörðu hvað mig varðar. Ég fann mig strax rosalega vel þar.“ Stefán, sem er 56 ára, sér ekki fram á að hætta að lyfta enda eltist hann enn við met sem hann vill bæta. „Ég vona að ég hætti aldrei að lyfta. Vonandi að guð og lukkan sjái til þess að svo verði. Ég hef ákveðin markmið. Ég ætla að keppa þegar ég er sextugur og bæta mig í beygjunum. Ég á Íslandsmetið í öldungaflokki en stefni á að bæta það, 255 kg, það er ekki neitt. Menn eru að keppa í kraftlyftingum fram í rauðan dauðann.“
Kynntust á Kleppi
Þeir félagar Stefán og Jón Páll fóru að vinna á Kleppi en Jón fór fljótlega að vinna sem dyravörður á Borginni en hann var fluttur frá Stefáni og kominn með konu. Stefán hætti fljótlega að sinna lyftingunum af sama kappi. Næga aukavinnu var að hafa á Kleppi og hann vann myrkranna á milli til þess að safna sér peningum. Þeir höfðu að mestu farið í mat áður en nú safnaði hann sér fyrir glæsi-
legum Ford Econoline húsbíl sem smíðaður var í Keflavík. Hann fékk fljótlega augastað á stúlku sem var læknaritari á Kleppi. „Við Inga kynnumst í ágúst ´84 og urðum vinir. Ég bauð henni svo í útilegu á húsbílnum hvítasunnuna ´85, þá byrjum við eiginlega saman.“ Tveimur árum síðar voru þau gift. Inga Ingólfsdóttir er uppalin á Hellissandi og er hjúkrunarfræðingur. Stefán segir það lukkuna í lífi sínu að hafa náð í hana. Hann kallar Ingu yfirleitt súperhjúkkuna frá Sandi. Vinir Stefáns á Facebook hafa fengið að kynnast því en þar er Stefán vanur að slá á létta strengi. Þríburar þeirra hjóna, þau Sindri, Sara og Ólöf komu í heiminn árið 1994 en fyrir áttu þau sex ára soninn Svavar. Stefán segir heimilislífið oft hafa verið ansi fjörugt og lítill tími gafst til þess að sinna lyftingum þegar börnin voru ung.
Mátti ekki bregða sér í Bónus án þess að bjarga mannslífi
Um það leyti sem þríburarnir voru að fæðast þá þurfti Stefán oft að bregða sér í Bónus til þess að undirbúa komu þeirra. Þar vann hann mikla hetjudáð í tvígang sem fjallað var um í fjölmiðlum. Eitt sinn átti hann leið í Bónus til þess að versla örbylgjuofn. „Ég er þarna að ræða við kunningja minn og segi honum að ég eigi brátt
von á þríburum. Hann bara blánaði upp og féll bara eins og spýta í jörðina. Ég hugsaði bara um að koma honum til hjálpar og blés í hann lífi. Hann hringdi síðar í mig og tjáði mér að hann hefði verið með leyndan hjartasjúkdóm. Mánuði síðar er ég að fara aftur í Bónus til þess að kaupa pela. Þegar ég er að fara út þá liggur maður í dyragættinni nær dauða en lífi. Ég hóf að hnoða hann og blása í hann lífi og tókst það. Þetta var eldri maður sem var hjartasjúklingur en hann lifði nokkur góð ár til viðbótar. Jóhannes í Bónus boðaði mig á fund eftir þetta allt saman en hann vissi að ég ætti von á þríburum. Hann spurðu hvort mig vantaði ekki eitthvað fyrir börnin, það hélt ég nú enda vantaði mig bleyjur. Jóhannes sagði mér að taka bleyjur að vild, sem ég og gerði enda mikil notkun á heimilinu,“ segir Stefán og hlær. Stefán kann afar vel við sig í InnriNjarðvík þar sem fjölskyldan kom sér fyrir. Svo vel að Stefán gengur nú yfirleitt undir nafninu Afi Spjóti í Dalnum. „Mér var rosalega vel tekið í vinnunni hér og það var alveg frábært að flytja hingað,“ en þau hjónin fengu bæði vinnu á sínum vettvangi og hefur vegnað vel í Reykjanesbæ.
TALAÐI OPINSKÁTT UM STERANOTKUN ■■Stefán vakti landsathygli á sínum tíma þegar hann talaði opinskátt um lyfjanotkun sína. „Ég misnotaði anabólíska stera þegar ég var ungur maður. Ég sagði mína sögu í Helgarpóstinum á sínum tíma. Ég hef ekki séð álíka umfjöllun þar sem talað er opinskátt um steraneyslu. Ég var ungur og vitlaus og át þetta eins og brjóstsykur. Það endaði þannig að ég var lagður inn á spítala með annað nýrað óstarfhæft. Ég er í raun heppinn að vera bara hérna megin.“ Stefán er á því að steranotkun sé meiri og verri í dag en í þá daga. Hann verður mikið var við notkun lyfja í lyftingum en hann segir mikinn skort vera á forvörnum frá yfirvöldum þegar kemur að steranotkun. „Þetta er feimnismál og það vantar alla umræðu,“ segir Stefán.
OPIÐ ALLAN SÓLARHRING INN
SENDIBÍLAR TIL LEIGU Leigðu sendibíl. Við bjóðum ódýra sendibíla til leigu í 4 klukkustundir, 8 klukkustundir eða lengur. Hringdu í síma 515 7110 eða kíktu á sendibilartilleigu.is Thrifty_Sendibílar_til_leigu_halfsida_Vikurfrettir_20170214_draft2.indd 1
Blikavellir 3 (við flugstöð) 235 Reykjanesbæ
14/02/2017 11:38
26
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. mars 2017
Skúli fékk gull-heiðursmerki Keflavíkur ●●Rekstur deilda Keflavíkur í ágætum málum Rekstur deilda Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, gekk vel á síðasta ári. Aðeins tvær af átta deildum skiluðu taprekstri. Heildarvelta deildanna og aðalstjórnar nam 407 milljónum króna. Heildarhagnaður deildanna nam 11,7 milljónum króna. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins í gærkvöldi. Aðeins körfuknattleiksog fimleikadeild náðu ekki að vera réttu megin við núllið í rekstri. Karfan tapaði 4 milljónum og fimleikadeildin 4,6 milljónum króna. Knattspyrnudeildin er lang stærsta deildin, velti 214 milljónum króna og hagnaðist á árinu 2016 um tæpar 12 milljónir króna. Fimleikadeild er næst stærst með 70 milljónir króna í tekjur en hún greiðir mjög háan þjálfunarkostnað eða 42 milljónir. Á fundinum var Skúla Skúlasyni veitt gull-heiðursmerki félagsins sem er æðsta viðurkenning sem veitt er hjá Keflavík. Skúli var fyrsti formaður Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags sem varð til við sameiningu Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna árið 1994. Skúli gegndi formennsku í fjögur ár og hefur komið að starfi félagsins á margvíslegan hátt. Starfsbikar Keflavíkur 2016 fékk Hjörleifur Stefánsson en hann hefur verið einn af mörgum duglegum sjálfboðaliðum Keflavíkur í gegnum tíðina. Hjörleifur hefur starfað mikið fyrir knattspyrnu- og körfuknattleiksdeild. Birgir Ingibergson og Þórður Magni Kjartansson voru sæmdir gullmerki Ungmennafélags Íslands og Bjarni Sigurðsson og Kristján Þór Karlsson voru sæmdir starfsmerki UMFÍ. Einar Haraldsson var endurkjörinn sem formaður félagsins. Kári Gunnlaugsson og Birgir Ingibergsson voru kjörnir í stjórn og Sveinn Adolfsson, Birgir Már Bragason og Eva Björk Sveinsdóttir kjörin í varastjórn.
Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur og Skúli Þ. Skúlason.
Hjörleifur Stefánsson fékk starfsbikar Keflavíkur.
Kristján Þór Karlsson fékk starfsmerki UMFÍ. Hér er hann með fulltrúum UMFÍ.
Birgir Ingibergsson og Þórður Magni fengu gullmerki UMFÍ.
ATVINNA
Skrifstofustarf Sveitarfélagið Garður leitar að þjónustufulltrúa í 70% stöðu á bæjarskrifstofu. Um tímabundið starf er að ræða frá maí 2017 til 1. júní 2018. Starfslýsing • Samskipti og móttaka viðskiptavina • Símsvörun • Skráning og skönnun reikninga • Önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur • Góð framkoma, rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og nákvæmni í vinnubrögðum • Stundvísi • Góð kunnátta í íslensku • Góð kunnátta í Exel og Word • Þekking á bókhaldsforitinu Navision er kostur Bæjarskrifstofur Garðs er reyklaus vinnustaður. Vinnutími er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9:30 til 15:00, föstudaga frá kl. 9:30 til 12:30. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi STFS við Samband sveitarfélaga. Umsóknir ásamt ferilsskrá sendist á Bæjarskrifstofu Garðs, Sunnubraut 4, 250 Garður eða á netfangið halla@svgardur.is fyrir 24. mars nk.
Sigurbjörg Róbertsdóttir formaður og Gunnar Egill Sigurðsson frá Samkaup ásamt afrekshópi ÍRB. VF-mynd/dagnyhulda
Samkaup styrkir sundfólk áfram Sundráð ÍRB og Samkaup hafa endurnýjað samstarf sitt til eins árs og var samningur þess efnis undirritaður á dögunum. Undanfarin ár hefur Samkaup verið einn af aðalstyrktaraðilum Sundráðs ÍRB. „Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að hafa samstarfsaðila eins og Samkaup með okkur í liði. Við erum mjög ánægð með þann mikla veljvilja og stuðning sem við finnum frá forsvarsmönnum
Samkaupa," segir Sigurbjörg Róbertsdóttir formaður. Árangur sunddeildarinnar hefur verið afbragðsgóður undanfarið ár. Í október varð Sundráð ÍRB bikarmeistarar karla og kvenna í 1. deild og í 2. deild kvenna. Þá vann ÍRB Aldurflokkameistaramót Sundsambands Íslands í júní. Á Íslandsmeistaramóti í 25 metra laug í nóvember vann ÍRB flest verðlaun allra liða og náði þeim góða árangri að vinna 21 grein af 44 mögu-
legum. Í tilkynningu frá félaginu segir að ekkert sundlið í íslenskri sundsögu hafi áður unnið svona marga titla á einu Íslandsmóti. Í heildina vann liðið til 39 verðlauna á mótinu. Í desember voru það sundmenn sem valdir voru íþróttakarl og íþróttakona Reykjanesbæjar en það voru þau Þröstur Bjarnason og Sunneva Dögg Robertson. „Frábært ár og árið 2017 lofar góðu með öfluga styrktaraðila okkur við hlið,“ segir í tilkynningunni.
fimmtudagur 9. mars 2017
27
VÍKURFRÉTTIR
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Anna Vernharðsdóttir, Smáratúni 12, Keflavík,
lést á heimili sínu, laugardaginn 25. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 10. mars kl. 13:00. Leifur Eiríksson, Guðbjörg Eiríksdóttir Blanar, Örn Eiríksson, ömmubörn og langömmubörn.
Hildur Ingvarsdóttir, Richard Blanar,
Ástkær sonur okkar, bróðir og barnabarn,
Jóhannes Hilmar Gíslason,
ÞÚSUNDIR Á NETTÓ-KÖRFUBOLTAMÓTI Í REYKJANESBÆ ■■Þúsundir körfuboltaiðkenda- og áhangenda voru í Reykjanesbæ á Nettó-mótinu sem haldið var í sex íþróttahúsum í bænum um síðustu helgi. Alls voru 23 félög með í mótinu með samtals 238 keppnislið. Leikirnir voru 548 og leikið var á 15 völlum í húsunum sex. Mótið hefur verið haldið síðan árið 1990. Margir keppendur og foreldrar þeirra gistu á svæðinu og settu þannig svip á bæjarfélagið þessa helgi. Mótið er samstarfsverkefni Keflvíkinga og Njarðvíkinga.
Kirkjustíg 5, Grindavík,
lést á heimili sínu síðastliðinn föstudag. Útförin fer fram mánudaginn 13. mars frá Grindavíkurkirkju kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Gísli J. Sigurðsson, Ásdís Hildur Gísladóttir, Halldór Þorláksson, Sigurður Rúnar Gíslason,
Klara Halldórsdóttir, Halldóra Rún Gísladóttir, Hildur Ketilsdóttir, Ásdís Dröfn Einarsdóttir.
ATVINNA OKKUR VANTAR: - MATREIÐSLUMANN - STARFSFÓLK Í ELDHÚS - BÍLSTJÓRA
UPPLÝSINGAR Á STAÐNUM.
Grænásbraut 619, Ásbrú
SMÁAUGLÝSINGAR
Njarðvík þarf að treysta á Keflavík ●●Fimm lið gætu endað jöfn með 22 stig Lokaumferð Domino’s deildar karla í körfubolta fer fram í kvöld. Njarðvíkingar verða að vinna í Þorlákshöfn en á sama tíma verða þeir að treysta á að grannar þeirra í Keflavík leggi ÍRinga á sterkum útivelli. Njarðvíkingar eru í níunda sæti deildarinnar með 20 stig líkt og Þórsarar frá Akureyri og ÍR. Þórsarar leika gegn Snæfell sem hefur tapað öllum leikjum tímabilsins til þessa þannig að líklega ná Þórsarar
í tvö stig þar. Innbyrðis standa ÍR og Þór betur en Njarðvík. Ef Keflavík tapar og Njarðvík vinnur þá munu fimm lið standa jöfn með 22 stig. Þór Þ., Keflavík, Þór A. ÍR og Njarðvík. Þessi lið verða þá sett upp í sérstaka deild þar sem innbyrðis viðureignir þeirra gilda. Þar standa Njarðvíkingar illa og þurfa því að treysta á granna sína eða lánlausa Hólmara.
SUNNUDAGUR 12. MARS KL.11:00 Þar sem organisti og kórfélagar verða í æfingabúðum í Skálholti munu hjónaleysin Hafsteinn Hjartarson og Lára Björg Grétarsdóttir syngja og spila í kirkjunni. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Þórdís Lúðvíksdóttir reiðir fram súpu með aðstoð fermingarforeldra. Jón “okkar” Ísleifsson kemur með brauðið sem Sigurjónsbakarí gefur, líkt og hvern sunnudag. Systa og leiðtogar og hafa umsjón með sunnudagaskólanum þar sem ávallt ríkir fjör og fræðsla. MIÐVIKUDAGUR 15. MARS KL. 12:00 Kyrrðarstund í kapellu vonarinnar. Arnór og sr. Eva Björk haldi uppi kyrrð og krúttlegheitum. Elsku gæðakonurnar matreiða súpu af kærleik.
Óskast Lítil íbúð/herbergi með baðherbergi, svefn- og eldunaraðstöðu, fyrir námsmann. 866-6707 Valdimar
UPPBOÐ Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir:
MÁNUDAGUR 13. MARS KL. 17:30 Aðalsafnaðarfundur Keflavíkursóknar þar sem hefbundin fundarstörf eru á dagskrá og einng gott í gogginn.
Vík 129208, eignarhluti gþ 0,463%, fnr. 209-2855, þingl. eig. Valgerður Jóhannesdóttir, gerðarbeiðandi Ladislav Haluska, þriðjudaginn 14. mars nk. kl. 09:15.
FIMMTUDAGUR 16. MARS KL.16:00 Fermingarbörn mæta í fræðslu með tár í augum því þetta er síðasta stund vetrarins. Í kirkjunni munu prestarnir og organista gefa þeim biblíusögu, bænir og söng.
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 7. mars 2017
Verið alltaf öll velkomin
Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir
www.vf.is
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
Mundi
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
Verða sundgestir ekki að vera þokkalega berir til að skola af sér kísil- og loðnubrælu?
instagram.com/vikurfrettir
Hluti veitingamanna vissi ekki af Nettómótinu
LOKAORÐ
Ingu Birnu Ragnarsdóttur
●●Þúsundir gesta og lokað á sumum ● veitingastöðum
Me me me Það styttist í sauðburð hjá bændum landsins, alltaf spennandi tími fyrir þá sem koma að því og ákveðinn vorboði fyrir okkur hin. Í fyrirsögn þessarar greinar er ég hins vegar ekki að vísa í sauðburðinn eða sauðkindina sem slíka heldur í enska útgáfu þessara orða sem Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group lét falla á uppgjörsfundi fyrirtækisins fyrir um mánuði síðan. Með þessum orðum var hann að lýsa kynslóðinni sem nefnd hefur verið “millennials” eða aldamótakynslóðin, kynslóðin sem kom í heiminn á árunum 1980-1995. Þessi kynslóð hefur einnig verið nefnd Y kynslóðin, en við henni tekur svo Z kynslóðin. Frá því í apríl 2016 hafa hlutabréf Icelandair lækkað um 60% og stór hluti lækkunarinnar kom í kjölfar þess að tilkynnt var um svarta afkomuspá fyrirtækisins. Á þessum uppgjörsfundi talaði forstjórinn um að fyrirtækið þyrfti að laga sig að breyttu neyslumynstri hverju sinni. Staðan eins og hún sé í dag sé aldrei fasti inn í framtíðina. Þetta er að sjálfsögðu hárrétt hjá forstjóranum, það er ekkert fasti í fyrirtækjarekstri. Það sem hitti mig hins vegar illa var að forstjórinn talar hér um heila kynslóð sem „sjálf-
hverfu kynslóðina”. Lærdómur nr. 1 – ekkert er fasti. Lærdómur nr. 2 – lærðu að þekkja viðskiptavini þína. Mörg fyrirtæki hafa „lent” í því sama og Icelandair. Þau sofna á verðinum og festast í eigin kerfum og ferlum sem gefa ekki tækifæri til sveigjanleikans sem þarf til þess að ná til nýrra kynslóða eins og þessarar sem er einstaklega vel upplýst og ber enga eða litla hollustu (e. loyalty) til fyrirtækja. Sömuleiðis hafa of mörg fyrirtæki fengið byr undir báða vængi vegna fákeppni í lengri tíma og reksturinn farið í hálfgerða sjálfsstýringu í eina átt meðan viðskiptavinir þess færast í aðra. Með þessum orðum er ég einfaldlega að leggja áherslu á mikilvægi þess að fyrirtæki séu vakandi yfir því að mæta kröfum viðskiptavina sinna, af öllum kynslóðum. Við eigum að gera þá kröfu sem þegnar þessa þjóðfélags að stjórnendur stærstu fyrirtækja landsins sem eru að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða landsins (lesist „okkar eigu”) séu stanslaust að vinna í því að bæta reksturinn en sofni ekki á verðinum, vakni svo upp við vondan draum við breytt neyslumynstur nýrra kynslóða.
Leyfilegt að vera ber að ofan í sundi ●●Sundgestir skuli að lágmarki klæðast ● sundskýlu eða sundbuxum Bæjarstjórn Sandgerðis samþykkti á fundi sínum á dögunum þá viðmiðunarreglu að í Sundmiðstöð Sandgerðis skuli sundgestir að lágmarki klæðast sundskýlu eða sundbuxum. Reglan á við bæði um konur og karla. Frístunda,- forvarna- og jafnréttisráð bæjarins lagði tillöguna fram. Áður voru ekki til skráðar reglur um sundfatnað gesta í sundlauginni. Klæðaburður sundlaugargesta í sundlaugum Reykjanesbæjar var jafnframt til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundaráði Reykjanesbæjar á dögunum. Ráðið óskaði eftir áliti óháðs
lögmanns til að fjalla um tvær lykilspurningar; 1. Eru í gildi reglur, skráðar eða óskráðar, sem banna konum að fara berbrjósta í sundlaugar Reykjanesbæjar? 2. Er leyfilegt að setja slíkar reglur? Álit lögmannsins er nokkuð ítarlegt en í niðurlagi álitsins mælir hann gegn því að settar verði reglur sem banni konum að fara berbrjósta í sund í sundlaugum Reykjanesbæjar. Íþróttaog tómstundaráð tekur undir þau orð í fundargerð sinni og lagði til við bæjarstjórn að ekki verði farið gegn áliti lögmannsins.
■■Hið árlega Nettó-mót fór fram í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Á mótinu keppa yngri flokkar félaga víðs vegar af landinu í körfubolta og keppendum fylgja foreldrar, systkini, þjálfarar og fleiri svo þúsundir g e s t a v or u á Su ð u r n e s ju m um síðustu helgi. Þrátt fyrir það var lokað á sumum veitingastöðum í há d e g inu á laugardag. Kj a r t a n M á r Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, greinir frá því á Facebook-síðunni Reykjanesbær - Gerum góðan bæ betri að við athugun hafi komið í ljós að hluti veitingamanna hafi ekki vitað af Nettó-mótinu. „Þetta gerist þrátt fyrir að búið sé að fjalla vel um mótið í fjölmiðlum og á netinu í aðdraganda þess. Þetta þurfum við að laga svo gestir okkar fái eins góða þjónustu og kostur er en einnig svo rekstraraðilar nái að nýta þau tækifæri sem bjóðast þegar þúsundir gesta dvelja í bænum okkar heila helgi,“ skrifaði bæjarstjórinn.
Framtíðarreikningur – í fullu gildi í framtíðinni
Filmumyndavél
Með því að leggja fermingarpeningana inn á Framtíðarreikning auðveldar þú þér að láta framtíðardraumana rætast. Fermingargjafir eldast misvel og með því að spara tryggir þú að gjöfin þín nýtist í framtíðinni. Framtíðarreikningur Arion banka ber alltaf hæstu vexti verðtryggðra sparnaðarreikninga okkar og er bundinn til
H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A – 1 7 - 0 7 4 0
6