Skip to main content

12 tbl 2016

Page 1

• Miðvikudagurinn 23. mars 2016 • 12. tölublað • 37. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Lagfæra sjóvarnir í Sandgerði og Garði n Byggingafulltrúi Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs hefur gefið út framkvæmdaleyfi til Vegagerðarinnar vegna lagfæringa og viðbóta á sjóvarnagörðum í sveitarfélögunum. Við Norðurkotstjörn í Sandgerði verður sjóvörn endurbyggð og styrkt á 300 metra kafla. Sunnan við Setberg verður byggð ný 100 metra sjóvörn. Sunnan við Hvalsnestorfu við Hrossatjörn verður 65 metra skarð í sjávarkambinum lagfært, við sunnanverða tjörnina. Í Garði verða sjóvarnir endurbyggðar á 85 metra kafla, vestan við bílaplan við Garðskagavita. Þá verður vör við Nesfisk, Lambastaðarvör, endurbyggð á þremur köflum, samtals 350 metrar. Við Golfvöllinn Leiru verður 300 metra framlenging á eldri sjóvörn lagfærð.

Grindvíkingar í úrslitakeppni eftir sigur í Keflavík l Keflvíkingar aldrei endað neðar l Grindvíkingar mæta Haukum í undanúrslitum n Unnið við sjóvarnir í Leirunni á dögunum.

Var að stilla útvarpið og velti bílnum n Bifreið valt á Sandgerðisvegi í vikunni sem leið eftir að ökumaður hennar missti stjórn á henni þegar hann var að stilla útvarp eða spilara í henni á ferð. Hann missti bifreiðina út í kant og brá svo við það að hann kippti henni aftur inn á akbrautina með þeim afleiðingum að hún valt og endaði á toppnum á miðri akbraut. Vegalengdin frá þeim stað sem bifreiðin fór út af og þar til hún stöðvaðist mældist rúmir 200 metrar. Ökumaðurinn var fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Skráningarnúmer voru fjarlægð af bifreiðinni.

Grindvíkingar tryggðu sér síðasta sætið í úrslitakeppni kvenna í körfuboltanum eftir 77:84 sigur á grönnum sínum úr Keflavík í gærkvöldi í hreinum úrslitaleik um fjórða sætið. Þær munu mæta Haukum í undanúrslitum. Grindvíkingar fögnuðu vel og innilega í leikslok en leikurinn var jafn og spennandi þrátt fyrir að þær grindvísku væru með yfirhöndina nánast frá upphafi leiks. Mun þetta vera í fyrsta skipti síðan úrslitakeppni kvenna hófst árið

1993 sem Keflavík er ekki með. Þær hafa hingað til aldrei endað neðar en í þriðja sæti deildarkeppninnar. Úrslitakeppnin í körfubolta stendur sem hæst um þessar mundir hjá körlunum en þar standa Suðurnesjaliðin misvel að vígi. Keflvíkingar og Grindvíkingar eru 2-0 undir í sínum rimmum en bæði liðin leika í kvöld. Það er svo jafnt hjá Njarðvík og Stjörnunni 1-1.

Fulltrúar heitloftsþurrkana boðaðir til fundar

l Lyktarmengun í Garði enn á borði bæjaryfirvalda Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs samþykkti samhljóða á síðasta fundi sínum að fela bæjarstjóra Garðs að boða fulltrúa þeirra fyrirtækja sem heitloftsþurrka fiskafurðir í sveitarfélaginu til fundar við bæjaryfirvöld. Lyktarmengun í Garðinum hefur verið nokkuð til umræðu að undanförnu

í Garði og á síðasta fundi bæjarráðs Garðs var farið yfir minnisblað bæjarstjóra frá fundi bæjarstjóra, formanns bæjarráðs og framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja með íbúum sem hafa kvartað vegna fyrirtækja sem reka heitloftsþurrkun fiskafurða í sveitarfélaginu.

Barnalán Erlu og Skúla

FÍTON / SÍA

l Opnuviðtal: Fjögur börn á þremur árum einföld reiknivél á ebox.is

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

Hjónin Erla Reynisdóttir og Skúli Björgvin Sigurðsson reyndu að eignast barn með ýmsum aðferðum frá árinu 2006 en það gekk ekki sem skyldi. Þau veltu því stundum fyrir sér hvort þau yrðu ef til vill aldrei foreldrar. Árið 2013 fengu þau nokkuð óvænt aðeins átta daga gamlan dreng í tímabundið fóstur. Það varð svo síðar varanlegt fóstur. Síðan þá hefur barnalánið leikið við þau, því þrjár dætur hafa bæst í hópinn. Sjá viðtal í miðopnu Víkurfrétta í dag.

Páskaþátturinn á skírdag kl. 21:00 Tónlistarlífið í Grindavík, starfs-

Klukkustund af fjölbreyttu

hlaupið í FS, safn á Vatnsleysu-

sjónvarpsefni frá Suðurnesjum

strönd, Taekwondo í Keflavík,

í bland við brot af því besta frá

Morfís, heilsuréttir og m.fl.

Sjónvarpi Víkurfrétta á ÍNN.

Sjónvarpsmaraþon frá Suðurnesjum að kvöldi skírdags á ÍNN

Sjónvarp Víkurfrétta - eitthvað fyrir alla!


2

VÍKURFRÉTTIR

STÖRF Í BOÐI Verkamaður. Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar óskar eftir starfsmanni í 100% starf sem fyrst. Um framtíðarstarf er að ræða. Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl. Nánari upplýsingar veitir Bjarni Þór Karlsson forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar í síma 420-3200 eða netfangið bjarni.karlsson@reykjanesbaer.is Starfsfólk í dagdvöl og heimaþjónustu. Velferðarsvið Reykjanesbæjar óskar eftir að ráða starfsfólk í dagdvalir aldraðra og félagslega heimaþjónustu. Um er að ræða sumarafleysinga- og framtíðarstörf. Umsóknarfrestur er til 1. apríl nk. Nánari upplýsingar um störfin veitir Ása Eyjólfsdóttir, forstöðumaður öldrunarþjónustu í netfangið asa.eyjolfsdottir@reykjanesbaer.is Umsjónakennarar og skólaliðar. Holtaskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta- og miðstigi fyrir næsta skólaár. Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl en ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst. Einnig óskar skólinn eftir skólaliðum. Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl en ráðið er í stöðuna frá 15. ágúst.

miðvikudagur 23. mars 2016

Oddný býður sig fram til formanns Samfylkingar Oddný Harðardóttir, þingkona Samfylkingar úr Garðinum, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar. Oddný hefur verið að íhuga málið að undanförnu en hún greindi frá ákvörðun sinni á Facebook þann 17. mars. Áður höfðu Helgi Hjörvar og Magnús Orri Schram lýst því yfir að þeir hygðust taka formannsslaginn. „Kæru félagar Ég vil leggja mig alla fram við að bæta íslenskt samfélag. Þess vegna hef ég ákveðið að gefa kost á mér til formanns Samfylkingarinnar. Verkefni okkar er að styrkja stöðu ungs fólks, barnafjölskyldna, aldraðra og öryrkja. Ójöfnuð sem birtist í óréttlátri skattastefnu og aukinni gjaldtöku í heilbrigðis- og menntakerfinu þarf

að stöðva strax. Til þess þarf samstillt átak jafnaðarmanna og verkalýðshreyfingarinnar. Ég vil vinna af krafti að því að heilbrigðisþjónusta verði ókeypis, að sett verði ný stjórnarskrá, að arðurinn af auðlindum skili sér til okkar allra og lífvænlegu umhverfi til komandi kynslóða. Til þess þarf sterka Samfylkingu. Þegar baráttumálin snúast um jafnrétti og réttlæti er auðvelt að stækka hópinn og fá hugsjónaeldinn til að brenna í hjörtum jafnaðarmanna. Ég óska eftir stuðningi þínum og samstarfi. Með baráttukveðjum, Oddný G. Harðardóttir“

Nánari upplýsingar um störfin veitir Eðvarð Þór Eðvarðsson í síma 420-3500/842-5640 eða í netfangið edvard.t.edvardsson@holtaskoli.is.

Undirgöng undir Reykjanesbraut á árinu

Umsóknum í öll ofangreind störf skal skila rafrænt á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/lausstorf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin.

Tengja Ásbrú við þjónustusvæði á Fitjum

BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR

PÁSKAFÖNDUR Í DAG Boðið verður upp á páskaföndur í Bókasafni Reykjanesbæjar í dag, miðvikudaginn 23. mars kl. 15.00 – 17.00. Það kostar ekkert og allir eru hjartanlega velkomnir. Starfsfólk minnir á myndasögunámskeiðið í safninu alla þriðjudaga kl. 16.15-17.15. Það er frítt og verður afrakstur námskeiðs að myndasögusýningu í safninu.

TILBOÐ ÓSKAST Ríkiskaup fyrir hönd Reykjanesbæjar óskar eftir tilboðum í fullbúið sjúkraþjálfunarrými með 5 starfsstöðvum. Húsnæðið er staðsett að Nesvöllum, Njarðarvöllum 4 í Reykjanesbæ, og er heildarhúsnæði stöðvarinnar u.þ.b. 232,1 m² að stærð. Allar nánari upplýsingar á vef Reykjanesbæjar, á slóðinni www.reykjanesbaer.is/upplysingatorg/frettir-og-tilkynningar/utleiga-a-sjukrathjalfunarrymum-i-reykjanesbae/20163

Meðeigendur Voga höfnuðu kauptilboði í iðnaðarlóð Kauptilboði Sveitarfélagsins Voga á hluta deiliskipulagðs lands á iðnaðarsvæði við Vogabraut var hafnað af fulltrúa annarra landeigenda en sveitarfélagsins. Þetta kom fram á fundi bæjarráðs Voga fyrir síðustu helgi. Lögmaður sveitarfélagsins fór á fundinum yfir þá valkosti sem hann telur vera í stöðunni varðandi næstu skref

málsins. Eins og fram hefur komið hefur fyrirtækið Ísaga ehf. lýst áhuga á því að reisa súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju á iðnaðarsvæði við Vogabraut. Í október sl. var svo bæjarstjóra Voga falið að óska eftir viðræðum við meðeigendur Sveitarfélagsins Voga að landsvæði við Hraunholt í Vogum um kaup á landinu. Kauptilboðinu hefur nú verið hafnað.

PÁSKAOPNUN

Fimmtudaginn 24. mars opið kl. 9:00 – 17:00 Föstudag 25. mars LOKAÐ Laugardag 26. mars opið kl. 9:00 – 17:00 Sunnudag 27. mars LOKAÐ Mánudag 28. mars opið kl. 9:00 – 17:00 Íþróttamiðstöð Njarðvíkur verður lokuð um páskahelgina.

Ráðhúsið verður lokað dagana 24. – 28. mars; bókasafn, þjónustuver og Ráðhúskaffi. Opnað verður að loknu páskaleyfi kl. 9:00 þriðjudaginn 29. mars. Óskum bæjarbúum gleðilegra páska.

Beiðni um þyrlupall synjað Hótel Keflavík óskaði eftir leyfi fyrir palli ■■Hótel Keflavík óskaði eftir viðræðum við Reykjanesbæ um þann möguleika að setja niður þyrlupall á lóðinni við Byggðasafnið á Vatnsnesi eða í nágrenninu. Málið var tekið fyrir á fundi umhverfisog skipulagsráðs Reykjanesbæjar 8. mars síðastliðinn og var því synjað. Ráðið telur að ekki sé landrými fyrir þyrlupall á svæðinu, auk þess sem þar séu íbúðar- og atvinnuhúsnæði allt um kring. „Íbúar og starfsfólk yrði fyrir miklu áreiti vegna hávaðamengunar og slysahættu,“ segir í fundargerð ráðsins.

SUNDMIÐSTÖÐ/VATNAVERÖLD

PÁSKALOKUN

■■Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar 8. mars síðastliðinn fór sviðsstjóri yfir hugmyndir um undirgöng undir Reykjanesbraut. Í fundargerðinni kemur fram að vonir standi til þess að framkvæmdir við undirgöng fyrir gangandi vegfarendur með tengingu Ásbrúar við þjónustusvæði við Fitjar ljúki á þessu ári. „Umhverfis- og skipulagsráð fagnar þessum áfanga og þakkar starfsmönnum sviðsins og sviðsstjóra fyrir góða framgöngu í þessu mikilvæga umferðaröryggisverkefni,“ segir í fundargerð ráðsins.

Geirmundur ákærður ●●Lýsir sig saklausan

Fyrrum sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík, Geirmundur Kristinsson, hefur verið ákærður fyrir misnotkun á stöðu sinni sem sparisjóðsstjóri með lánveitingum til einkahlutafélaga. Samkvæmt fréttum RÚV er sparisjóðsstjórinn fyrrverandi meðal annars sakaður um að hafa framselt félagi, sem síðar var framselt syni hans, stofnfjárbréf í sparisjóðnum upp á tæpar 700 milljónir króna, án þess að greitt væri fyrir þau.

Ákæran verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness 1. apríl næstkomandi. Verjandi Geirmundar sagði í samtali við fréttastofu RÚV að sparisjóðsstjórinn fyrrverandi lýsti sig saklausan af ákærunni. Hann hafi aðstoðað lögreglu við rannsókn málsins og að það séu honum veruleg vonbrigði hve langan tíma rannsóknin tók. Fall Sparisjóðsins í Keflavík kostaði skattgreiðendur um 20 milljarða króna.

UPPBOÐ Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs verður haldið á skipinu DUUS.IS, KE, fnr. 7772 (farþegaskip), fimmtudaginn 31. mars nk. kl. 09:30 á skifstofu embættisins að Vatnsnesvegi 33, Keflavík. Þinglýstur eigandi er Upplifum Reykjanes ehf., gerðarbeiðandi er Eignarhaldsfélag Suðurnesja hf. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum, 21. mars 2016, Ásgeir Eiríksson, staðgengill sýslumanns.


Flugvirkjanám hjá Keili Hagnýtt nám í alþjóðlegu umhverfi Fimm anna bóklegt og verklegt iðnnám fyrir flugvirkja Approved IR Part 66 Category B1 sem fer fram í nýrri og glæsilegri aðstöðu Keilis á Ásbrú. Námið er í samstarfi við einn virtasta flugvirkjaskóla í Evrópu. Umsóknarfrestur er til 2. maí næstkomandi.

Samstarfsaðili Flugakademíu Keilis í flugvirkjanáminu AST - Air Service Training í Skotlandi, vann árið 2015 til Queen's Award, einna virtustu verðlauna sem eru veitt breskum fyrirtækjum. FLUGAKADEMÍA KEILIS

// ÁSBRÚ

// 578 4000

// www.flugvirkjun.is


markhönnun ehf

PÁSKA AFSLÁTTUR

40% PÁSKASTEIK ÚRBEINAÐUR GRÍSABÓGUR FYLLTUR MEÐ KANIL OG EPLUM

1.499 ÁÐUR 2.498 KR/KG

STÓR PÁSKAKJÚKLINGUR M/FYLLINGU

1.273 ÁÐUR 1.498 KR/KG

PÁSKA AFSLÁTTUR

20% JENSEN’S SÓSUR - 8 TEG

478 ÁÐUR 598 KR/STK

KJÖTSEL LAMBALÆRI FERSKT

1.487 ÁÐUR 1.690 KR/KG

PÁSKA AFSLÁTTUR

50% JARÐARBER 250 G

299 ÁÐUR 598 KR/PK

BETTY CROCKER KÖKU MIX

Mikið úrval

Tilboðin gilda 23. – 28. mars 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


Páskab

Gleðilega páska

ing ækl

PÁSKA AFSLÁTTUR

Net tó e r

ur

40%

GRÍSABÓGUR HRINGSKORINN

599 ÁÐUR 998 KR/KG

komin n út

COOP GRÆNAR BAUNIR SMÁAR 400 G

COOP GULRÆTUR OG GRÆNAR BAUNIR 455 G

COOP MAÍSKORN Í POKA 650 G

COOP RAUÐRÓFUR 720 G

COOP RAUÐKÁL 720 G

259

179

389

269

269

PÁSKA AFSLÁTTUR

ÓDÝRT PÁSKAEGG NR. 4 250 G

799

PFANNER ORGANIC MULTI ROSSO/GOLD 1L

PFANNER SAFAR - 6 TEG 1L

229

219

ÁÐUR 269 KR/STK

ÁÐUR 249 KR/STK

PÁSKA AFSLÁTTUR

PÁSKA AFSLÁTTUR

30%

30% VÍNARBRAUÐ PEKAN

20%

EMMESSÍS SKAFÍS - 3 TEG

349 ÁÐUR 493 KR/PK

Páskaopnun

Reykjanesbæ

Skírdagur Föstudagurinn langi Páskadagur Annar í páskum

10:00 - 18:00 Lokað Lokað 10:00 - 18:00

ORKUBOLTI

139

279

ÁÐUR 199 KR/STK

ÁÐUR 398 KR/STK

www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Glerártorg · Hrísalundur · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Húsavík · Egilsstaðir · Selfoss


6

VÍKURFRÉTTIR

ATVINNA V ÉLSTJÓRI ÓSK AST Skinnfiskur ehf. Í Sandgerði óskar eftir að ráða vélstjóra í fullt starf. Menntun & hæfniskröfur : Vélstjóramenntun er skilyrði.

miðvikudagur 23. mars 2016

Góð þátttaka í Menningarviku Góð þátttaka var í viðburðum Menningarviku Grindavíkur. Fjölmargir viðburðir voru í vikunni sem hófst á Safnahelgi á Suðurnesjum og lauk sl. sunnudag. Handverk var fyrirferðarmikið í menningarvikunni að þessu sinni og þá var á annan tug málverkasýninga víða um Grindavík. Meðfylgjandi myndir voru teknar í menningarvikunni. Fleiri myndir á vf.is.

Viðkomandi þarf að hafa reynslu af frystivélum og kælipressum. Vélstjóri annast viðhald í verksmiðju Skinnfisks. Þarf að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum Áhugasamir sendi ferilskrá fyrir 30. mars 2016 á Guðlaugu B. Aradóttir, framkvæmdastjóra á netfangið gulla@skinnfiskur.is

Viltu vinna í olíubirgðastöð? Olíudreifing ehf. óskar eftir að ráða í sumarstörf. Við leitum að starfsmönnum staðsettum í olíubirgðastöðinni í Helguvík. Vinnan felst í reglubundinni umhirðu eldsneytis, afgreiðslu eldsneytis og öðrum störfum í birgðastöð.

Leitað er að fólki sem getur unnið sjálfstætt. Æskilegt er að viðkomandi sé með C1 ökuréttindi. Við hvetjum jafnt konur og karla til að sækja um störfin. Nánari upplýsingar veitir Guðni Georgsson í síma 550 9907.

Meginstarfsemi Olíudreifingar er dreifing og birgðahald á fljótandi eldsneyti. Olíudreifing rekur einnig bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði. Starfsmenn félagsins eru um 130 talsins á starfsstöðvum víðsvegar um landið. Starfað er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum. Olíudreifing | Hólmaslóð 8-10 | 101 Reykjavík | sími 550-9900 | odr@odr.is | www.oliudreifing.is

Umsóknir sendist á odr@odr.is. Ráðningartíminn er sveigjanlegur, getur verið allt frá byrjun apríl til loka september.

Dansar og draugar á árshátíð Holtaskóla Það er óhætt að segja að dansinn hafi ráðið ríkjum á árshátíð Holtaskóla sem fram fór í íþróttahúsinu við Sunnubraut í dag. Nemendur í 2., 4. og 6. bekk sýndu alls kyns dansa en áhersla hefur verið lögð á danskennslu þetta skólaárið. Nemendur sýndu meðal annars skottís, Macarena, cha – cha - cha og fleiri dansa. Nemendur í 8. bekk sýndu skemmtilegt tónlistarmyndband.

Eftir atriðin í íþróttahúsinu var komið að hinu sívinsæla draugahúsi með tilheyrandi eftirvæntingu nemenda. Draugahúsið vekur alltaf lukku og höfðu nemendur og starfsmenn það á orði að það hefði sjaldan verið betra. Meðan á draugahúsinu stóð þáðu nemendur, gestir og starfsmenn Holtaskóla veitingar í boði foreldra.


i með lambalær skum n e villtum ísl rtum u j d d kry

suðræn da kryddblan

3.798 kr. kg

3.998 kr. kg

1.898 kr. kg

1.398 kr. kg

Íslandslamb Lambafillet Ferskt

Íslandslamb Lambafillet Kryddlegið, ferskt

Kjarnafæði Lambahryggur Kryddaður, ferskur

Kjarnafæði Heiðalamb Kryddað lambalæri, ferskt

SPARAÐU MEÐ BÓNUS

Nýreyktur frá

1.298 kr. kg

3.798 kr. kg

2.579 kr. kg

Bónus Hamborgarhryggur Með beini

Kjarnafæði Lambalund Krydduð, fersk

SpÆnska

kryddpyls

398 kr. 170 g

Quadricromia Rosso: 100m 100y 35k Giallo: 15m 100y

Pantone Rosso: 704 C Giallo: 116 C

eislufugl Ferskur V llingu með fy

Íslenskur lax

El Pozo Kryddylsa Spánn, 170 g

Smakkaðu á töfrum Ítalíu

998 kr. kg

Norðanfiskur Reyktur eða grafinn lax

6 fyrir 4

Veislufugl Með fyllingu, ferskur

Risaegg

749

1kg

kr. 6 stk.

Pepsi kippa 6x2 l

100kr

100kr

verðlækkun

verðlækkun

598 kr. 200 g

498

Parmigiano Ítalskur ostur, 200 g Verð áður 698 kr.

Grana Padano Ítalskur ostur, 200 g Verð áður 598 kr.

398

kr. 200 g

kr. 100 g

Ítölsk Þurrskinka 100 g - Verð áður 498 kr.

698 kr. stk.

598 kr. stk.

Nóa Páskaegg Bónus Páskaegg Nr. 3, 150 g Nr. 3, 170 g

2.598 kr. 1 kg Bónus Risaegg, 1 kg

opnunartími um páskana Þriðjudagur Miðvikudagur Skírdagur Föstudagurinn langi

Verð gilda til og með 27. mars eða meðan birgðir endast

22. mars 23. mars 24. mars 25. mars

11-19 10-20 10-19 LOKAÐ

Laugardagur Páskadagur Annar í páskum

26. mars 10-19 27. mars LOKAÐ 28. mars 12-18


8

VÍKURFRÉTTIR

miðvikudagur 23. mars 2016 Erla og Skúli með börnunum fjórum, Alexander 3 ára, Emmu og Lilju 3 mánaða, og Birtu 17 mánaða.

Hver meðferð var mikill rússíbani því stundum var þetta óljóst með niðurstöður og við tók meiri bið

FJÖGUR börn á ÞREMUR árum ●●Reyndu í mörg ár að eignast barn l Tóku nýfæddan dreng í fóstur árið 2013 og hafa eignast þrjár dætur síðan

Hjónin Erla Reynisdóttir og Skúli Björgvin Sigurðsson reyndu að eignast barn með ýmsum aðferðum frá árinu 2006 en það gekk ekki sem skyldi. Þau veltu því stundum fyrir sér hvort þau yrðu ef til vill aldrei foreldrar. Árið 2013 fengu þau nokkuð óvænt aðeins átta daga gamlan dreng í tímabundið fóstur. Það varð svo síðar varanlegt fóstur. Síðan þá hefur barnalánið leikið við þau, því þrjár dætur hafa bæst í hópinn. Aðeins 16 ára gamall var Skúli greindur með krabbamein. Læknar tjáðu honum að eftir lyfjameðferðina yrði mögulegt að hann gæti ekki eignast börn vegna sterkra lyfjagjafa. Það varð því úr að sæði úr honum var fryst og geymt þar til hann yrði eldri. Skúli kveðst ekki hafa verið í neinum barneignahugleiðingum á þeim tíma og fannst þetta allt hálf skrítið. „Pabbi í raun tók öll völd þegar ég sagði þetta vera óþarfa og ég man þann dag mjög vel þegar við keyrðum saman í bæinn með einn skammt,“ segir hann og brosir. Svo leið tíminn og árið 2006 ákváðu Skúli og Erla að leita eftir aðstoð frá Art Medica til að eignast barn eftir að í ljós kom að „sundmennirnir“

væru fáir á ferli þó einhverjir vissulega væru. Þau fóru í nokkrar tæknifrjóvgunarmeðferðir sem gengu ekki eins og þau hafði dreymt um. „Við misstum fóstur á 9. viku og þar á eftir fáum við utanlegsfóstur. Hver meðferð var mikill rússíbani því stundum var þetta óljóst með niðurstöður og við tók meiri bið. Þetta reyndi alltaf mikið á,“ segir Erla. Eftir tæknifrjóvgunarmeðferð er biðin tvær vikur og er þá tekin blóðprufa sem gefur til kynna hvort niðurstaðan sé jákvæð eða neikvæð. Þau eru sammála um að það tímabil hafi alltaf verið erfitt. Árið 2011 ákváðu þau að taka hvíld frá barnapælingum og rækta sjálf sig. Áður höfðu þau skráð sig á lista til

ættleiðingar á barni frá Kólumbíu. „Það voru góðar horfur með að ættleiða barn þaðan til að byrja með en svo fóru ótrúlegir hlutir að gerast í Kólumbíu sem töfðu það allt saman svo það varð ekki úr því hjá okkur,“ segir Skúli.

Fylltu upp í tómarúmið með ferðalögum

Á þeim árum þegar Erla og Skúli voru að reyna að eignast barn ferðuðust þau mikið. „Það var kannski okkar leið til að fylla upp í barnleysið og við heimsóttum marga framandi staði eins og Hawaii, Kína og svo Mexico,“ segir Erla. Þegar þau voru nýkomin heim úr ferð til Mexíkó í mars 2013

Það kom Skúla og Erlu skemmtilega á óvart að heyra að þau ættu von á tvíburum því þungun án aðstoðar tækninnar var talin nær útilokuð eftir veikindi Skúla á unglingsárum. Á myndinni eru tvíburasysturnar Emma og Lilja sem fæddust í desember síðastliðnum.


miðvikudagur 23. mars 2016 fengu þau svo símtal og var boðið að taka að sér sjö daga gamalt barn í tímabundið fóstur. Stuttu áður höfðu þau hafið það ferli að gerast fósturforeldrar. „Það var hringt í okkur um klukkan 16:00 þriðjudaginn 12. mars. Við mættum á fund næsta morgunn klukkan 10:00. Við vissum ekki einu sinni hvort um væri að ræða stúlku eða dreng. Á fundinum fengum við að heyra að þetta væri drengur og um bakgrunn hans. Okkur var svo boðið að hugsa málið í smá stund en sú ákvörðun var auðveld. Næsta skref var að koma við í barnavöruverslun og kaupa bílstól fyrir drenginn til að komast heim,“ segir Erla. „Og þetta var í raun fyrsta skiptið sem við komum inn í slíka búð,“ skýtur Skúli inn í.

Eignuðust barn með 20 klukkutíma fyrirvara

Hlutirnir gerðust hratt þennan dag í mars 2013. Þau lögðu af stað með drenginn heim í Njarðvík á hádegi. Á Reykjanesbrautinni hringdu þau í foreldra sína og nokkra vini og sögðu þeim fréttirnar. „Þegar við komum heim, hálftíma seinna, var búið að útvega okkur allt sem þarf þegar barn kemur í heiminn. Við fengum vöggu, stól, skiptiborð, bleyjur og föt. Við náum líkast til aldrei að þakka þessu góða fólki fyrir allt sem þau hafa gert fyrir okkur,“ segir Skúli. Þau hrósa enn þann dag í dag happi yfir því að hafa ekki verið nokkrum dögum lengur í Mexíkó því þá hefði þeim ef til vill ekki staðið til boða að taka drenginn að sér. Drengurinn fékk nafnið Alexander Emil og er hann nú sem fyrr segir í varanlegu fóstri. Þau voru himinlifandi yfir því að verða loks foreldrar og segjast hafa verið fullkomlega sátt með að eiga eitt barn. Í hálfgerðri rælni ákváðu þau að fara á Art Medica og prófa að fara í eina meðferð án þess að gera sér neinar vonir um að það myndi ganga betur en áður. Sú meðferð var tíunda tilraunin og tókst. Níu mánuðum síðar, þann 31. október 2014, fæddist dóttir þeirra, Birta. Erla segir að á þeim tíma þegar þau fóru í síðustu meðferðina hafi þau ekkert

9

VÍKURFRÉTTIR velt því fyrir sér hvernig það yrði að eiga tvö börn með aðeins 20 mánaða millibili. Það var í nógu að snúast hjá Erlu og Skúla með krílin tvö. Þegar Birta varð sex mánaða ákváðu þau að fá í fyrsta sinn næturpössun fyrir börnin og eyða kvöldinu í góðra vinahópi. Þann sama morgun var Erlu flökurt og ákvað að taka þungunarpróf, svona til að geta útilokað þann möguleika að hún ætti von á barni. Erlu og Skúla til mikillar undrunar var niðurstaðan jákvæð, því eins og áður sagði, var talið nær útilokað að það væri hægt eftir veikindi Skúla á unglingsárunum. „Ég var að vinna þann morgun með vini mínum, Sigurði Stefánssyni, og hann sagði við mig að þetta væru kannski bara tvíburar og hló sínum einstaka hlátri. Hann var með þetta allt á hreinu frá upphafi,“ segir Skúli. Erla fór í snemmsónar til að fá staðfestingu frá lækni. „Ég spurði lækninn hvort þetta væri virkilega mögulegt. Hann sagði mér þá að ég væri ólétt en að það væru nú ekki einu fréttirnar. Hann þurfti ekki að segja meira því þá vissi ég að þetta væru tvíburar,“ segir Erla brosandi. Þann dag var Skúli staddur á Spáni að vinna og Erla hringdi í hann og bað hann að setjast niður á meðan hún sagði honum fréttirnar.

Lífið er eins og tómatsósa

Tvíburasysturnar Emma og Lilja fæddust svo 16. desember síðastliðinn eftir 33. vikna meðgöngu og dafna vel. Börnin fjögur fæddust því á innan við þremur árum. Skúli segir marga hafa sagt við þau eftir að þau eignuðust Alexander og svo Birtu að þetta væri nú ekki einsdæmi. „Það var eins og við manninn mælt. Einn góður maður líkti þessu við nýja flösku af tómatsósu. Það er alltaf erfitt að ná tómatsósu úr flöskunni og maður lemur og lemur á botninn og það gerist ekkert. Svo allt í einu kemur alveg hellingur.“ Það er líf og fjör á heimili fjölskyldunnar. Þau hafa góða rútínu á öllu og þannig gengur vel. Þau segja foreldra sína hafa verið mjög hjálpleg og oft bjargað málunum á stóra heimilinu.

TÓNLEIKAR

„Ömmur og afar eru mjög dugleg að koma í heimsókn og finnst yndislegt að gefa systrunum að drekka, leika við þau eldri og hjálpa við heimilisstörf,“ segir Erla. Skúli er flugvirki hjá Keili og skrifar íþróttafréttir fyrir Morgunblaðið. Á kvöldin þegar hann er að skrifa koma oftast foreldrar þeirra eða jafnvel góðir vinir og hjálpa við að elda kvöldmatinn og að koma börnunum í háttinn. Erla er tölvunarfræðingur hjá Icelandair og þegar þau verða bæði byrjuð að vinna aftur er stefnan sett á að finna au-pair til að hjálpa til með heimilið. Skúli og Erla horfa björtum augum til framtíðar og eru þakklát fyrir að draumur þeirra um að eignast barn hafi ræst og vel það. „Á tímabili leit út fyrir að við yrðum bara tvö og það var ekki eitthvað sem við höfðum ímyndað okkur. Foreldrahlutverkið er mikil áskorun í dag en það verður yndislegt að fylgjast með systkinunum vaxa og dafna og leika sér saman í framtíðinni,“ segir Erla.

Það er enginn skortur á stuði á heimili fjölskyldunnar.

FRÍTT INN

Skírdagur - fimmtudagur 24. mars kl. 20:00

Í Ytri Njarðvíkurkirkju

Fram koma: Hljómsveitin G.I.G. Daney Haraldsdóttir - söngur, Pétur Erlendsson og Ármann Jakob Pálsson - gítar, Rafn Hlíðkvist - piano & hljómborð, Guðni Gunnarsson - trommur, Jóhann Ásmundsson - bassa Sérstakur gestur verður söngkonan Anna Sigríður Ávarp: Helgi Guðnason prestur Fíladelfíu Reykjavík

25.

Föstudagurinn langi - 25. mars kl. 16:30 Í Hvítasunnukirkjunni Keflavík Tónlist: Herbert Guðmunsson ásamt sönghópi kirkjunnar Prédikun: Chris Parker

27.

-láttusjá þig! Páskadagur - sunnudagur 27. mars kl. 11:00 Í Hvítasunnukirkjunni Keflavík Tónlist: Sönghópur kirkjunnar Ræðumaður: Kristinn Ásgrímsson

Hvítasunnukirkjan í Keflavík www.keflavikgopspel.is


10

VÍKURFRÉTTIR

miðvikudagur 23. mars 2016

Paddý’s yfirtekin með aðstoð Reykjanesbæjar

NÓ

I SÍRÍUS

Undanfarið ár hefur ítrekað verið fjallað í fjölmiðlum um veitingastaðinn Paddý’s við Hafnargötu í Reykjanesbæ sem ég undirritaður, rak í rúm fimm ár. Vegna rangfærslna í þessum skrifum og fullyrðinga um vanskil mín við Reykjanesbæ tel ég rétt að birta mína hlið á málinu og segja frá því hvernig núverandi rekstraraðilum staðarins tókst að sölsa hann undir sig með dyggum stuðningi bæjaryfirvalda. Með þeirri aðgerð var tugmilljóna fjárfesting mín í Paddý’s gerð upptæk. Árið 2009 keypti ég rekstur veitingastaðarins Paddý’s, en húsið var þá í eigu Reykjanesbæjar. Húsið við Hafnargötu 38 var nánast að hruni komið og því þurfti ég að ráðast í miklar endurbætur og styrkingar á því. Alls lagði ég um 30 milljónir króna í kaup á rekstrinum og í endurbætur á staðnum og eru þá ótaldar þær fjölmörgu milljónir sem ég greiddi í húsaleigu og önnur gjöld. Bærinn lagði ekki krónu í viðhald á húsinu þann tíma sem ég var með það á leigu og skilaboðin frá þáverandi bæjarritara voru skýr um að það mætti rífa húsið hans vegna. Til að halda rekstrinum áfram var því ekki um annað að ræða en að lagfæra allt fyrir eigin reikning. Fyrir vikið safnaðist upp leiguskuld en leigan var há og í engu samræmi við ástand hússins eða um 350 þúsund krónur á mánuði. Í nóvember 2013 óskaði ég eftir að bæjarráð lækkaði leiguna og að skuld sem safnast hafði upp yrði sett á skuldabréf til þriggja ára. Þetta var samþykkt og skuldabréfið gefið út og það móttekið af Reykjanesbæ sem greiðsla á hinni vangoldnu leigu. Í mars 2014 vildi ég fá að nýta efri hæð húsins og opna m.a. eldhús til að auka tekjumöguleika og gera reksturinn arðbærari. Til að ráðast í þessar framkvæmdir þurfti samþykki bæjaryfirvalda sem eiganda hússins og skilning á því að leigugreiðslur og greiðslur af skuldabréfi kynnu að tefjast eitthvað á meðan á framkvæmdunum stæði. Þegar það lá fyrir og framkvæmdum var lokið fékk Paddý’s endurnýjað vínveitingaleyfi með matsölu og í lok maí sama ár gat Paddý’s loksins tekið aðstöðuna í notkun.

Útburði hótað þrátt fyrir samning

Eftir sveitarstjórnarkosningar í maí 2014 komst til valda ný bæjarstjórn í Reykjanesbæ og tók bæjarritari þá tímabundið við störfum bæjarstjóra. Þann sama dag fékk ég útburðarbréf frá honum þar sem mér voru gefnir 10 dagar til að greiða upp skuld mína við bæinn eða yfirgefa staðinn ella. Hinn setti bæjarstjóri viðurkenndi

Alþjóðlegur páskaeggjameistari! Hreina páskaeggið okkar vann yfirburðasigur í páskaeggjasmakki DV í ár, en dómnefndin var að þessu sinni eingöngu skipuð erlendum sælkerum. Þetta ætti ekki að koma á óvart, því öll viljum við hafa páskaeggin okkar fullkomin. Við þökkum kærlega fyrir okkur — nú mega páskarnir koma!

facebook.com/noisirius

ekki lengur skuldabréfið sem bærinn hafði samþykkt, án þess þó að skila skuldabréfinu. Þessir afarkostir settu allar áætlanir mínar í uppnám en eftir að hafa minnt á samning bæjarins við mig var mér veittur frestur fram á haust til að komast í skil. Þetta gekk eftir og í ágúst 2014 var leigan á Paddý’s aftur í skilum. Í ágúst 2014 óskaði ég formlega eftir áframhaldandi leigu á húsnæðinu næstu 3 árin í samræmi við forleigurétt í leigusamningi sem átti að renna út um miðjan janúar 2015. Í bréfi til bæjarins gerði ég grein fyrir hvernig ég hyggðist greiða upp skuldina sem enn stóð út af vegna skuldabréfsins. Ég fékk engin engin svör frá bænum en í lok ágúst kom einn bæjarráðsmaðurinn til mín og greindi mér frá því að bærinn vildi uppgreiðslu á skulda-

Svikin loforð

bréfinu og væri tilbúinn að veita afslátt ef ég gæti borgað þetta upp, til dæmis strax eftir Ljósanótt sem var nokkrum dögum seinna, í byrjun september. Enn stóð ég frammi fyrir afarkostum.

Yfirtökutilboð

Þegar hér var komið sögu höfðu tveir ungir menn samband og buðust til að taka staðinn yfir gegn því að gera upp skuldina við bæinn auk greiðslna til seljanda sem var langt undir eðlilegu kaupverði fyrir veitingastað eins og Paddý’s. Í framhaldinu fóru ungu mennirnir í viðræður við bæinn og komu til baka með þau tíðindi að bærinn samþykkti að þeir fengju húsið ef ég afsalaði forleiguréttinum til þeirra skriflega. Fram kom að bærinn hyggðist nú fella niður skuldina og gilti þá greinilega ekki lengur það sama um Jón og séra Jón. Síðan liðu tveir mánuðir án þess að komið væri með leiguframsalið til undirritunar og því rak ég staðinn áfram. Í nóvember höfðu kaupendurnir aftur samband og sögðu bæinn ætla að bjóða út leigu á húsinu

Gönguferð Grindavíkurbæjar og Bláa lónsins á annan í páskum Á annan í páskum verður boðið upp á gönguferð með leiðsögn um stórbrotið umhverfi Bláa Lónsins. Gangan hefst klukkan 11:00 við bílastæði Bláa lónsins og er áætlað að hún taki um þrjár klukkustundir. Hægt er að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til baka. Gangan er í boði Bláa lónsins og Grindavíkurbæjar og enginn þátttökukostnaður er í gönguna. Gengið verður m.a. um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól (gígnum sem hraunið kom úr á sögulegum tíma), farið með Skipstíg, fornri þjóðleið, haldið austur með norðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Þar

og að ég ætti engan forleigurétt. Þá fór ég á fund bæjaritara og bauðst til að greiða upp skuldina þrátt fyrir að hún væri umsamin til þriggja ára. Þessu tilboði mínu var ekki svarað en hins vegar fóru að birtast furðufréttir um málið í blöðum um að það ætti ýmist að rífa húsið eða færa það og að ég hefði ekki staðið við skuldbindingar mínar. Enn höfðu hinir áhugasömu kaupendur samband í desember 2014 og óskuðu nú eftir að fá að taka við rekstri staðarins með því loforði að fengju þeir húsið sem átti að fara að bjóða út þá yrði gert upp við mig. Það varð úr að þeir tóku við rekstri Paddý’s í desember og var það til bráðabirgða á mínu nafni á meðan málið var enn óuppgert. Í janúar 2015 var ég spurður af bæjarritara hvort nýir rekstraraðilar gætu notað eitthvað af búnaði staðarins ef til kæmi. Ég ítrekaði að ég hefði boðið uppgreiðslu á öllum skuldum við bæinn og að bærinn hefði enga heimild til að ráðstafa innanstokksmunum á Paddý’s.

er ætlunin m.a. að kíkja á þjófaslóðir og hin gömlu sel Grindvíkinga. Þá verður gengið um hið litskrúðuga lónssvæði að lækningalindinni og endað í heilsulind. Þátttakendum í göngunni sem hafa hug á að fara í Bláa lónið að göngu lokinni er vinsamlegast bent á að ganga tímanlega frá bókun á heimasíðu Bláa lónsins. Góður skófatnaður er æskilegur og gott er að taka með sér smá nesti. Allir þátttakendur eru á eigin ábyrgð. Sigrún Franklín verður leiðsögumaður í göngu.

Í febrúar 2015 var upplýst að nýju rekstraraðilarnir hefðu keypt húsið af bænum og gerði ég þá ráð fyrir að í framhaldinu yrði staðið við loforð um uppgjör við mig. Þegar ég gekk eftir því kom skyndilega annað hljóð í strokkinn. Þeir buðust til að greiða 700 þúsund krónur fyrir tækin í Paddý’s og sögðust hafa keypt húsið af bænum með öllu naglföstu. Þetta gat ég ekki sætt mig við og vildi fá að sækja tæki og tól sem ég átti á staðnum og tilkynnti þeim jafnframt að Paddý’s nafnið fengju þeir ekki að nota. Þessu var öllu mótmælt með látum. Þegar ég óskaði aðstoðar bæjarins við að sækja eigur mínar neitaði bæjarritari og sagði að við það yrði búnaðurinn verðlaus. Þarna fór með öðrum orðum fram eignaupptaka á búnaði og innréttingum í minni eigu, ekki eingöngu með velþóknun bæjaryfirvalda heldur beinlínis fyrir tilstilli þessara sömu bæjaryfirvalda. Allt út af skuld sem ég hafði boðist til að greiða upp. Allar götur síðan hef ég, ásamt lögfræðingi mínum, gert ítrekaðar tilraunir til að fá afhent gögn bæjarins um söluna á húsnæði Paddý’s við Hafnargötu 38 en án árangurs. Eftir stendur að framganga bæjarins í þessu máli vekur áleitnar spurningar um siðferði og heilindi þeirra sem bænum stýra og um ungu mennina sem sölsuðu undir sig Paddý’s með aðstoð bæjaryfirvalda. Ármann Ólafur Helgason fyrrum veitingamaður á Paddý’s

FIMMTUDAGURINN 24. MARS SKÍRDAGSKVÖLD Kvöldmessa kl. 20:00. Sr.Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar. FÖSTUDAGURINN 25. MARS FÖSTUDAGURINN LANGI Messa klukkan 14:00. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. SUNNUDAGURINN 27. MARS PÁSKADAGUR Hátíðarguðsþjónusta kl. 08:00. Sr. Erla Guðmundsdóttir og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjóna.Morgunmatur í Kirkjulundi að lokinni messu. Helgistund á Nesvöllum kl.12:30 og Hlévangi kl. 13:00. sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Kór Keflavíkurkirkju syngur við allar messur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. MÁNUDAGURINN 28. MARS ANNAR Í PÁSKUM Kl. 11:00. Sunnudagaskóli og páskaeggjaleit.


miðvikudagur 23. mars 2016

11

VÍKURFRÉTTIR

Fjölmenningunni fagnað í Sandgerði Á þemadögum í Grunnskólanum í Sandgerði í síðustu viku var lögð áhersla á fjölmenningu. Þemadögunum lauk með sýningu og dansi þar sem foreldrar, ættingjar og vinir tóku þátt. Skólahópur leikskólans Sólborgar tóku fullan þátt í þemadögum líkt og oft áður. Í Grunnskólanum í Sandgerði eru 224 nemendur og þar af er 31 nemandi af erlendu bergi brotinn. Auk þess tengjast nemendur skólans ættartengslum til 24 landa á einn eða annan hátt. Að sögn Fanneyjar Dóróthe Halldórsdóttur, skólastjóra Grunnskólans í Sandgerði, er fjölmenning vel heppnuð samblöndun ólíkra menn-

ingarhefða. „Þegar talað er um fjölmenningarlegt samfélag er átt við samfélag þar sem fólk af ólíkum uppruna, með ólíka siði, hefðir, menningu og tungumál býr og starfar saman á jafnréttisgrundvelli,“ segir hún. Á þemadögunum unnu nemendur með og lærðu um hinar ýmsu menningarhefðir í gegnum dans, tónlistarflutning, myndlist og sköpun, lestur, bakstur og leiki svo eitthvað sé nefnt. Fanney segir mikinn áhuga nemenda, gleði og forvitni hafa einkennt vinnu vikunnar. Bæjarfélagið er nú að endurskoða fjölmenningarstefnu sína í samvinnu

við skólana en henni er ætlað að vera samofin við þjónustu, viðhorf og gildi bæjarfélagsins. „Nemendur eru upprennandi kynslóð einstaklinga sem koma til með að lifa í samfélagi sem er ríkt af menningu margra þjóða. Þar af leiðandi er mikilvægt að þeir þekki menningarheima heimsins. Fordómar eru byggðir á fáfræði og því er mikilvægt að börnin okkar þekki vel til þeirra þjóðarbrota sem búa á Íslandi,“ segir Fanney. Fjölmenningarstefna Sandgerðisbæjar og móttökuáætlun skólanna á að vera lýsandi fyrir hvers konar samfélag íbúar Sandgerðis vilja og endurspegla þau gildi sem skólinn og bæjarfélagið vill byggja á.

SJÓNVARP

gs a d r í k s i að kvöld til 22:00 kl. 21:00

V I K U L E G U R F R É T TA M AG A S Í N Þ Á T T U R F R Á S U Ð U R N E S J U M Í S J Ó N VA R P I

RAFTÓNLISTIN

BROT AF ÞVÍ BESTA

HOLLARI FÆÐA

Ásdís Ragna kennir okkur að búa til hollari rétti á fimm mínútum!

Björn Valur vinnur tónlist með Emmsjé Gauta og Úlfi Úlfi.

HVAÐ ER MORFÍS?

Ræðuskörungar úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja lifa á ruslfæði í heila viku fyrir ræðubardaga.

GRINDVÍSK TÓNLIST

STARFSHLAUPIÐ

Hið árlega starfshlaup Fjölbrautaskóla Suðurnesja vekur ávallt athygli. Við vorum þar!

Páskaþáttur Sjónvarps Víkurfrétta er klukkustundar langur og þar er fjölbreytt nýtt efni í bland við brot af því besta...

Hver er sérstaða Tónlistarskóla Grindavíkur? Sjáið það í þætti vikunnar.

NORÐURKOTSSKÓLI

Við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd er lítið hús með stórar hugmyndir. Við skoðum það í þættinum.

KLUKKUSTUNDAR LANGUR ÞÁTTUR AÐ KVÖLDI SKÍRDAGS KL. 21:00

TAEKWONDO Í KEFLAVÍK

Íslandsmótið í bardaga fór fram í Keflavík þar sem heimamenn vörðu titilinn. Við vorum á mótinu.

Sjónvarp Víkurfrétta - eitthvað fyrir alla!


12

VÍKURFRÉTTIR

miðvikudagur 23. mars 2016

Viljum við hætta öllum forvörnum gagnvart slysum á sjó? Spyrja má hvers konar umfjöllun það fengi í samfélaginu ef fram kæmi á Alþingi tillaga um að hætta námskeiðahaldi fyrir sjómenn og forvarnarstarfi gagnvart slysum á sjó. Sú röksemdafærsla sem heyrst hefur frá talsmönnum þess að selja áfengi í matvörubúðum er að ýmsu leyti hliðstæð slíkum málflutningi. Með komu Varnarliðsins jókst aðgengi að áfengi á Suðurnesjum eins og þekkt er. Í marga áratugi hefur verið meira um heimilisofbeldi á Suðurnesjum en annarsstaðar á landinu. Allar fagstéttir sem vinna að menntunar og velferðarmálum hafa bent á skaðann sem aukið aðgengi að áfengi veldur. Meira en 70 prósent kvenna eru andvíg því að selja áfengi í verslunum.

Kynnir nýjan disk með „live“ flutningi Listamaðurinn Guðmundur R Lúðvíksson hefur sent frá sér nýjan geisladisk sem ber heitið Ástin er undarleg. Á disknum eru 10 ný lög við texta eftir hann sjálfan sem og Kristján Hreinsson og einn texti eftir Guðjón Weihe.

Þeir sem koma fram við hljóðfæraleik á disknum eru Vilhjálmur Guðjónsson, Bjarni Sveinbjörnsson, Geir Ólafsson, Ástvaldur Traustason, Birgir Nielsen, Guðmundur Steingrímsson, Kjartan Már Kjartansson.

Guðmundur mun fylgja disknum eftir á óvenjulegan hátt. Í stað þess að vera með hefðbundna útgáfutónleika mun hann poppa upp hér og þar - veitingahúsum og verslunum og flytja „live“ lögin af disknum.

Bátur vikunnar 21.–27. MARS

SMALABITI Lambakjöt og bearnaise

599

Stór bátur Lambakjöt, sveppir, tómatar, mozzarella-ostur og bearnaise-sósa

Bátur, vefja eða salat

999 kr. 599 kr.

þú velur bát, vefju eða salat

PIPAR \ TBWA • SÍA

Áfengisneysla stór áhrifavaldur Afleiðingar áfengsneyslu eru oft samnefnari í öllum þessum vandamálum. Tímamótarannsóknin ACE STUDY var unnin árin 1995 – 1997. Þátttakendur voru 17.000. Rannsóknin sýnir ef að stúlka elst upp á heimili með foreldrum sem misnota áfengi eru 500% meiri líkur á að hún verði fórnarlamb heimilisofbeldis á fullorðinsárum og 900% meiri líkur á að hún verði fyrir nauðgun. Gróði verslunar = tap fólksins! Verslanakeðjurnar þurfa ekki að greiða kostnað af aukinni áfengisneyslu almennings og þeim félagslegu áföllum sem af henni leiða. Sá kostnaður lendir hinsvegar á samfélaginu með ýmsum birtingarmyndum þar sem einna átakanlegast er aukið heimilisofbeldi

Viljum við hætta að fyrirbyggja sjóslys? Með sömu rökum ættum við ekki að kenna sjómönnum að fyrirbyggja óhöpp eða slys um borð í skipum, ekki að ætlast til að skipstjórar forðist að sigla skipum sínum í hættu eða að krefjast þess að skip séu vel útbúin og með björgunarbáta. Nei ekki aldeilis - samkvæmt þeirri hugmyndafræði sem fram kemur í umfjöllun um sölu áfengis í matvörubúðum þá ættum við eingöngu að veita auknu fé til landhelgisgæslunnar og björgunarsveita. Þessir aðilar sjá jú um að bjarga því sem bjargað verður þegar skaðinn er skeður. Það er sú hugsun sem kemur fram í umræðunni um þetta frumvarp á Alþingi. Getur verið að þingmenn Íslendinga árið 2016 séu tilbúnir til að samþykkja regluverk um sölu áfengis sem jafngildir því að afnema fullkomlega allar slysavarnir og forvarnarhugsun fyrir sjómenn á Íslandsmiðum og beina einungis kröftum að björgunarliðinu? Hér er um að tefla stærra mál en svo að það snúist bara um hver fær að selja hvað. Hér er eitt af stærstu lýðheilsumálum samfélagsins lagt á vogarskálarnar - og öll fagleg og skynsemisrök eru á móti breytingu á núverandi fyrirkomulagi. Hér mun við afgreiðslu þessara mála verða fylgst grannt með afstöðu þingmanna og þá hverjir taka afstöðu byggða á hagsmunum þjóðarinnar annars vegar og hagsmunum verslunarinnar hinsvegar. Fyrir þingmenn Suðurnesja er þetta val einfalt - einkennin eru einna skýrust í þeirra kjördæmi. Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu og hjónaráðgjafi

Viðvíkjandi Reykjanesið Verndum og stöndum vörð um náttúruperlur Íslands. Þetta land er ólíkt öllum öðrum löndum og sérstætt eins og við vitum. Þess vegna koma líka margir ferðamenn hingað til lands. Þeir vilja flestir sjá sem mest ósnortna náttúru hér. Ósnert náttúra er að verða æ sjaldgæfari í heiminum. Þess vegna, - því fleiri mannvirki, því verra.

kr.

HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ: NORÐLINGAHOLTI · GULLINBRÚ ÁLFHEIMUM · SÆBRAUT · MJÓDD GARÐABÆ · MOSFELLSBÆ

Kynferðisofbeldi tengist áfengisneyslu 22% kvenna hafa verið beitt kynferðisofbeldi á einhverjum tíma. Þáttur áfengisneyslu í kynferðisofbeldismálum er löngu þekktur. Hafði andstaða fagstétta og kvenna engin áhrif á ákvörðum meirihluta allsherjar og menntamálanefndar? Samtök foreldrafélaga, sem eru afl 21. aldar í að styrkja menntun og velferð í landinu og samtök barna og ungmenna eru í hópi þeirra sem eru andvíg sölu áfengis í matvöruverslunum.

gagnvart bæði konum og börnum með öllum því óbætanlega tjóni sem af slíku hlýst. Til að réttlæta þessa breytingu á fyrirkomulagi á sölu áfengis sem er í raun bein aðför að lýðheilsu og hagsmunum almennings, er rætt um að lögreglan fái fjármagn til að stunda forvarnir og taka félagsleg vandamál eins og heimilisofbeldi fastari tökum. Á því er full þörf nú þegar án þess að bætt sé í til að fjölga slíkum verkefnunum.

Það var því leiðinlegt að frétta að það standi til að byggja fleiri hús við Reykjanesvita. Þetta myndi rýra svæðið verulega með tilliti til upplifunar af náttúrunni þar. Stærðar hús með hóteli myndi líka skyggja á útsýnið. Ósk mín og margra annarra er: Ekki skemma svæðið með því! Elísabet D. Eiríksdóttir

ATVINNA

STARFSKRAFTUR ÓSKAST Í RÆSTINGAR / HREINGERNINGAR Við leitum að karlmanni 25 ára eða eldri sem hefur einhverja reynslu við störf í ræstingum eða hreingerningum og hefur unnið við td gluggaþvott, gólfhreinsun oþh.

LANDSBYGGÐIN: BORGARNESI · AKRANESI AKUREYRI · REYÐARFIRÐI KEFLAVÍK · SELFOSSI · HELLU

Viðkomandi verður að hafa gild ökuréttindi og tala íslensku eða hafa gott vald á ensku.

quiznos.is

Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, vera stundvís og hafa góða framkomu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknum skal skila á vef Allt hreint sem er: allthreint.is undir liðnum : „Atvinna í boði“

SJÓNVARP

s i skírdag d l ö v k ð a til 22:00 kl. 21:00

V I K U L E G U R F R É T TA M AG A S Í N Þ Á T T U R F R Á S U Ð U R N E S J U M Í S J Ó N VA R P I

Ath fyrirspurnum er ekki svarað í síma!


miðvikudagur 23. mars 2016

13

VÍKURFRÉTTIR

45 milljónir til 35 verkefna úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2016. Sjóðurinn er byggður á samningi um Sóknaráætlun Suðurnesja fyrir árin 2015 til 2019, sem Atvinnuog Nýsköpunarráðuneytið, Mennta- og Menningarmálaráðuneytið og Samband Sveitafélaga Suðurnesjum hafa gert með sér. Sjóðurinn hefur það markmið að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun Suðurnesja, með því að treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni svæðisins. Hlutverk Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni, auk annarra verkefna, er falla að Sóknaráætlun Suðurnesja. Uppbyggingarsjóður Suðurnesja er samkeppnissjóður. Umsóknir eru metnar út frá markmiðum og áherslum sem fram koma í úthlutunarreglum sjóðsins. Umsóknir til Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja að þessu sinni voru 63 og hljóðuðu styrkbeiðnirnar upp á rúmar 127 milljónir króna. Að þessu sinni er úthlutað 45 milljónum til 35 verkefna: Sjö verkefnanna flokkast undir stofn- og rekstrarstyrki til menningamála og hljóta þau verkefni alls 10,8 milljónir í styrk. Fimmtán verkefnanna tilheyra menningarmálum og hljóta þau verkefni alls 13,3 milljónir í styrk. Þrettán verkefnanna eru nýsköpunar- og þróunarverkefni og hljóta þau verkefni alls 20,9 milljónir í styrk. Stærstu verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni, þ.e. tvær milljónir króna eða meira:

Sýningar í byggðasafni og Garðskagavita – þróun og efnisvinnsla.

Verkefnið lýtur að fyrsta flokks afþreyingu og þjónustu á Garðskaga fyrir erlenda ferðamenn jafnt sem íslendinga. Verkefninu er ætlað að styðja við sögu, menningu og listir svæðisins. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2.000.000 kr.

Safnahelgi á Suðurnesjum.

Safnahelgi á Suðurnesjum er sameiginleg kynning allra safna, sýninga og setra á Suðurnesjum sem liður í menningarferðaþjónustu utan hins hefðbundna ferðamannatíma. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2.000.000 kr.

Fuglaskoðunarkort af Reykjanesi.

Verkefnið felur í sér gerð fuglaskoðunarkorts fyrir Reykjanesskagann, ætlað ferðamönnum og áhugafólki um fuglaskoðun. Reykjanesskaginn er sérstaklega vænlegur til fuglaskoðunar og mikil þekking varðandi fuglalíf á svæðinu. Rannsóknir og gagnaöflun hefur staðið yfir árum saman hjá Náttúrustofu Suðurvesturlands. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2.000.000 kr.

Sýnileiki UNESCO á Reykjanesi – Reykjanes Geopark.

Fengist hefur leyfi til að nota merki UNESCO í markaðssetningu á svæðinu. Verkefnið gengur út á að auka sýnileika þessa merkis gagnvart aðilum í ferðaþjónustu, almenning á Suðurnesjum og ferðamönnum.

Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2.000.000 kr.

FlutningsVaki – Sjálfvirkt Gæðaeftirlit.

Verkefnið snýr að hönnun og þróun á nýjum sjálvirkum búnaði sem skrásetur hvar, hvenær og hverskonar meðhöndlun varningur í flutningi verður fyrir. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2.000.000 kr.

Nexis heilsueflingarkerfi (heilsugátt)

Verkefnið snýr að markaðssetningu heilsueflingarkerfis fyrir fyrirtæki og stofnanir á Íslandi ásamt tengdri þjónustu. Verkefnið byggir á fjölþjóðlegu samstarfi sérfræðinga á sviði lýðheilsu, sem hafa það að markmiði að efla heilbrigði meðal almennings. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2.000.000 kr.

Þróun mengunarmiðstöðvar með áherslu á líffræðilega mælikvarða – rannsóknir og vöktun í eiturefnavistfræði.

Verkefnið gengur út á þróun á nýtingamöguleikum, aðferðafærði og aðstöðu til rannsókna á sviði mengunarrannsókna, með áherslu á eiturefnavistfræði. Rannsóknaraðstaðan að Garðvegi 1 í Sandgerði er einstök á heimsælikvarða til rannsókna í eiturefnavistfræði. Það sem gerir aðstöðuna einstaka er annars vegar borholusjórinn sem dælt er bein inn í húsið ásamt afar fjölbreytilegu fuglalífi í nánasta nágrenni. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2.000.000 kr.

Listasafn Reykjanesbæjar – tvær merkar sýningar.

Verkefnið sem flokkast undir Stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála lýtur að uppsetningu tveggja merkra sýninga sem settar verða upp á árinu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2.000.000 kr.

Endurbygging Fischershúss 3. áfangi.

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma

Ellen Einarsdóttir, Efra Hofi, Garði,

lést laugardaginn 12. mars. Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 4. apríl kl. 13:00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

Verkefnið sem flokkast undir Stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála lýtur að endurbyggingu Fischershúss sem Waldimar Fischer byggði árið 1881. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2.500.000 kr.

Varðveisla Verbúðarinnar Bakka í Grindavík og umhverfis þess.

Verkefnið sem flokkast undir Stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála lýtur að uppbyggingu Verbúðarinnar Bakka. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 2.500.000 kr.

Reykjanes Aurora.

Verkefnið lýtur að þróun og uppbyggingu í ferðaþjónustu á Reykjanesi. Verkefnið er til þess fallið að skapa svæðinu enn meiri sérstöðu en nú er, laða að fleiri ferðamenn og fjölga störfum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð 3.500.000 kr. Um alla styrki og styrkþega má lesa á vf.is.

Elskuleg eiginkona mín, móðir, amma og langamma,

Bára Lárusdóttir,

Hringbraut 59, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, laugardaginn 19. mars. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 29. mars kl: 13:00. Tómas Hansson, Ingimar Örn Pétursson, Bára Rós Ingimarsdóttir, Pétur Ingi Ingimarsson, Róbert Þór Ingimarsson, og barnabarnabörn.


14

VÍKURFRÉTTIR

miðvikudagur 23. mars 2016

SMÁAUGLÝSINGAR Til leigu

FÉLAGSÞJÓNUSTA

Snyrtileg 84 fm íbúð með tveimur svefnherbergjum til leigu í Sandgerði. Laus strax, upplýsingar í síma: 8998087 Gaui/ E mail: Icelandfresh@ gmail.com

SANDGERÐISBÆJAR, SVEITARFÉLAGSINS GARÐS OG SVEITARFÉLAGSINS VOGA

Atvinna

Fín herbergi til leigu á besta stað í Keflavík. Internet, aðgengi að, salerni, sturtu, þvottaaðstöðu og eldhúsi. Verð frá 45-60þús. Nánari upplýsingar hjá linarut@pt.lu

Forstöðumaður skammtímavistunar og búsetuþjónustu Þekking og hæfni: Háskólamenntun sem nýtist í starfi og haldgóð reynsla. Mikil færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.

Íbúð óskast

Óska eftir 2ja herbergja íbúð frá 1. apríl. Er 41 árs. Mjög góð meðmæli. Dísa 862-5565.

Ábyrgðarsvið/markmið starfs: Forstöðumaður ber ábyrgð á rekstri og faglegu starfi skammtímavistunar fatlaðs fólks. Forstöðumaður skipuleggur framkvæmd búsetuþjónustu og vinnur að undirbúningi sjálfstæðrar búsetu einstaklinga. Í starfinu felst bæði dagleg umsýsla og þróun þjónustunnar í samstarfi við félagsmálastjóra.

Verið velkomin

HÆFILEIKARÍKIR SUÐURNESJAMENN Í SKEMMTILEGU LEIKRITI

Umsóknarfrestur er til 31. mars nk. Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila á netfangið kristin@sandgerði.is

Leikfélag Keflavíkur frumsýnir leikritið Eitt töfrateppi takk þann 1. apríl næstkomandi. Þeir Jón Bjarni Ísaksson og Arnór Sindri Sölvason leikstýra verkinu sem er samstarfsverkefni leikfélagsins og Vox Arena, leikfélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Þetta er stórskemmtilegt verk í anda leikritsins um Alladín,“ segir Jón Bjarni. „Það fjallar um strák sem býr á götunni og verður ástfanginn. Þetta minnir svolítið á Rómeó og Júlíu því þau mega ekki vera saman,“ bætir Arnór við. Leikstjórarnir eru fullvissir um að fólk á öllum aldri hafi gaman af sýningunni enda er það þeirra helsta markmið. „Við vildum gera sýningu sem öll fjölskyldan getur haft gaman af. Við vildum gera eitthvað sem okkur finnst skemmtilegt og erum búin að gera þetta eins skemmtilegt og við getum. Við hlæjum á öllum æfingum og þá erum við bara sáttir,“ segja þeir.

VÖRÐUNNI MIÐNESTORGI 3 – 24 SANDGERÐI – SÍMI 420 7500

Fjöldi leikara, dansara og tónlistarfólks tekur þátt í sýningunni. „Við vildum nýta það hæfileikaríka fólk sem er hérna á Suðurnesjum. Hér er Bryn Ballett og Danskompaní og ótrúlega mikið af hæfileikaríkum dönsurum. Með okkur vinna tveir hæfileikaríkir danshöfundar, Ingibjörg Sól Guðmundsdóttir og Díana Dröfn Benediktsdóttir, sem hafa gert mjög flotta dansa fyrir leikritið. Dansatriðin eru rosalega flott og vel sungin,“ segir Arnór. „Það standa sig allir í hópnum vel og eiginlega miklu betur en við bjuggumst við í upphafi. Þau eru öll að bæta sig á hverri æfingu og vinna alltaf heimavinnuna sína,“ segir Jón Bjarni. Eins og áður sagði verður Eitt töfrateppi takk frumsýnt 1. apríl. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Leikhúss Keflavíkur lk.is og á Facebook-síðunni Leikfélag Keflavíkur.

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla

Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

VELKOMIN Í HÚSASMIÐJUNA REYKJANESBÆ ÁRA 1956 - 2016

Húsasmiðjan fagnar 60 ára afmæli

Afgreiðslutími um páskana Skírdagur ............................ Lokað Föstudagurinn langi .......... Lokað Laugardagur 26. mars.........10-14 Annar í páskum .................. Lokað

20%

Betra verð

20%

afsláttur

Sjá afgreiðslutíma um land allt á www.husa.is

SÚPER AFMÆLISTILBOÐ

62.900

kr

Gasgrill

Weber Q2200. Flott gasgrill á fótum. Grillflötur: 54 x 39 cm 3000378

15.900 19.900

kr

afsláttur

SÚPER AFMÆLISTILBOÐ

19.120

kr

Gasgrill

23.900 Gasgrill

3000226

3000225

Outback Omega 100. 2ja brennara. Grillflötur: 50x36 cm

Outback gasgrill, 2ja brennara. Grillflötur: 50x36 cm

w w w. h u s a . i s


miðvikudagur 23. mars 2016

15

VÍKURFRÉTTIR

ÍÞRÓTTIR

Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is

AÐALFUNDUR Stjórn Íþróttafélagsins Nes boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður í sal Myllubakkaskóla, Reykjanesbæ, þriðjudaginn 12. apríl 2016 og hefst kl.19:00. Áhugasamir sem vilja gefa kost á sér í stjórn eru beðnir um hafa samband í email stjórnar (nes.stjorn@gmail.com) sem og að mæta á aðalfund. Stjórn Íþróttafélagsins Nes

Orlofshús

Taekwondo-deild Keflavíkur er sigursælasta deild landsins Taekwondo-deild Keflavíkur er sigursælasta deild landsins en um helgina var haldið Íslandsmót í Ólympíuhluta íþróttarinnar, sem er bardagi. Keflavík skartaði góðu liði á heimavelli en mótið var haldið í íþróttahúsinu við Sunnubraut.

Verkalýðsfélag Grindavíkur Sumar 2016

Keflvíkingar vörðu titilinn og sigruðu í liðakeppninni ásamt því að fá 11 einstaklings Íslandsmeistara. Keflvíkingar hafa haldið þessum titli óslitið síðan 2010 og hafa samtals náð 11 liðstitilum á Íslandsmótum í taekwondo.

Ljósmynd: Tryggvi Rúnarsson hjá TRPROFILM

Þorsteinn lætur af störfum hjá Keflavík Þorsteinn Magnússon, framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Keflavíkur, hefur ákveðið að láta af störfum eftir átta ára starf sem framkvæmdastjóri og formaður deildarinnar. Þorsteinn var kjörinn formaður knattspyrnudeildar 14. febrúar 2008 og hefur starfað óslitið fyrir deildina síðan. Fram til ársins 2008 tók Þorsteinn einnig þátt í starfi félagsins með ýmsum hætti og fékk nýverið 15 ára gullmerki fyrir stjórnar-

Tekið verður á móti umsóknum til og með 4. apríl 2016 á félagavefnum: www.app.joakim.is/SjodsfelagaVefur/Sjodsfelagavefur_f150.html#forsida Úthlutað verður 6. apríl. Um er að ræða vikuleigu frá 24. maí til 6. september. Leiguverð þarf að greiða 2. maí til staðfestingar. Orlofshús til útleigu sumar 2016 Apavatn Hallkelshólar Skorradalur Vestursíða Akureyri

setu í knattspyrnudeildinni. Frá þessu er greint á heimasíðu Keflavíkur. Þorsteinn og Knattpyrnudeild Keflavíkur hafa náð samkomulagi um starfslok Þorsteins og mun hann vera deildinni innan handar þar til nýr framkvæmdastjóri tekur til starfa og aðstoða viðkomandi við að kynna sér starfsemi deildarinnar. Knattspyrnudeildin þakkar Þorsteini fyrir sitt framlag til knattspyrnunnar og óskar Þorsteini velfarnaðar á nýjum vettvangi.

HRINGBRAUT

Félagsmenn heiðraðir á aðalfundi UMFN Aðalfundur UMFN var haldinn á dögunum. Þar kom fram að fjárhagsstaða félagsins er mjög góð auk þess sem veittar voru viðurkenningar fyrir starf í þágu félagsins. Kosið var til aðalstjórnar og nefnda og var Ólafur Eyjólfsson kjörinn formaður með lófaklappi. Jenný L. Lárusdóttir kynnti uppkast að reglugerðum sem Aðalstjórn hefur verið að vinna að og munu verða teknar í gagnið á þessu ári. Karfan veitti gullmerki fyrir 20 ára starf eða keppni fyrir félagið: Ómari Kristjánssyni Björgvin Magnússyni Ágústi Hrafnssyni Láru Ingimundardóttur Bronsmerki, fyrir 10 ára

starf eða keppni fyrir félagið: Halldóru Halldórsdóttur Knattspyrnudeildin veitti eftirtöldum viðurkenningu

Gullmerki, fyrir 20 ára starf eða keppni fyrir félagið: Guðmundi Sæmundssyni Jóni Einarssyni Silfurmerki, fyrir 15 ára starf eða keppni fyrir félagið: Helga Arnarsyni Bronsmerki fyrir 15 ára starf eða keppni fyrir félagið: Haraldi Helgasyni Þóri Haukssyni, bronsmerki fyrir 10 ára starf við þjálfun yngri flokka félagsins.

Opnunartími yfir páska Skírdagur

10.00 - 22.00

Föstudagurinn langi

10.00 - 22.00

Páskadagur

10.00 - 22.00

Annar í páskum

10.00 - 22.00


Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

Mundi

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

Guðjón Ingi Guðjónsson Þegar ég sá á vefmiðlum í morgun mynd af konunni minni R agnheiður Elín Árnadóttir afhenda borgarstjóra Chicago lopapeysu hélt ég í smá stund að hún væri kannski farin að prjóna í laumi og varð smá spældur yfir því að hafa ekki fengið fyrstu peysuna hennar. En þar sem hún hefur nú alltaf sagt að prjóna og saumaskapur séu ekki hennar sterkasta hlið…enda er það ég sem sé um að festa á tölur og svona á heimilinu…þá hafði ég nú ekki trú á því að þetta væri hennar handverk. Enda kom í ljós að þarna var hún bara að afhenda borgarstjóranum gjöf fyrir hönd Icelandair og hafði ekkert með peysuna að gera. Ég verð því væntanlega að sjá um saumaskapinn áfram á heimilinu… enda finnst mér það allt í lagi….nema þegar að ég þurfti að færa til töluna á smókingnum mínum og sætta mig við þá staðreynd….að föt skreppa saman með tímanum. Og eins og sést á þessari mynd af mér þá á ég líka þessa fallegu handprjónuðu lopapeysu og er því nokkuð vel settur. Þorsteinn Eggertsson Oddný Harðardóttir Vertu alltaf jafn hógvær, málefnaleg, klár og kúl og þú hefur alltaf verið – og þú gætir orðið næsti forsætisráðhera Íslands. Við Jón Baldvin fengum okkur í glas um daginn og honum líst sérstaklega vel á þig. Hann vill bara breyta nafni flokksins; í Bandalag jafnaðarmanna - eða eitthvað í þeim dúr. Rock on!

twitter.com/vikurfrettir

instagram.com/vikurfrettir

Gefðu sparnað í fermingargjöf Gjafakort Landsbankans er góð leið til að gefa sparnað í fermingargjöf. Ef fermingarbarnið leggur 30.000 krónur eða meira í sparnað hjá Landsbankanum greiðir bankinn 6.000 króna mótframlag. Þannig getur gjafakortið lagt grunn að góðum fjárhag. Kortið kemur í fallegum gjafaumbúðum og fæst í útibúum Landsbankans. Kynntu þér sparnaðarleiðir fyrir fermingarbarnið á klassi.is.

SÍA

VIKAN Á VEFNUM

Hvað verður um hann Bonneau? #askgudmundur

JÓNSSON & LE’MACKS

•

jl.is

•

Gummi Steinars @gummisteinars Verður fróðlegt að sjá hvað ákveðin tegund af kærleik gerir núna? #flokkstjóri #sumaríReykjanesbæ Edda Sif Pálsdóttir @EddaSifPalsd Tók viðtal við frábæra konu í morgun, var augljósleg kör f ub olt atengd og ég spurði. Sagðist vera mamma MG10. Besta sem ég hef heyrt. Lovísa@LovisaFals Massa respect a Hauka fyrir að spila í mislituðum sokkum í tilefni #InternationalDownSyndromeDay #korfubolti

Erna Sóley Eyjólfsdóttir Klassafélagi og karate–lærlingur

Brynjar Leifsson Santiago we like you #omam #omamtour #chile #santiago

Landsbankinn

landsbankinn.is

NÚ ER AÐ DUGA EÐA DREPAST! MÆTUM OG STYÐJUM STRÁKANA!

410 4000

MIÐVIKUDAGINN 23. MARS KL. 19:15


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook