• Fimmtudagurinn 7. mars 2016 • 14. tölublað • 37. árgangur
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
LJÓSMYND: EYÞÓR SÆMUNDSSON
Fjórar F15C og eldsneytisvél í loftrýmisgæslu
Stjarna er fædd
n Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hófst að nýju sl. mánudag með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Flugsveitin kemur frá Air National Guard í Westfield, Massachusetts. Alls munu um 150 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kom til landsins síðdegis í gær með fjórar F-15C orrustuþotur og KC-135 eldsneytisbirgðaflugvél. Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki fyrir lok apríl. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, segir í frétt Landhelgisgæslunnar.
l Jóhanna Ruth söng til sigurs í úrslitum Ísland Got Talent l „Það voru allir að knúsa mig og kissa“ Nemendur Myllubakkaskóla tóku Jóhönnu Ruth opnum örmum þegar sigurvegari Ísland got talent söng fyrir samnemendur sína á sal skólans í vikunni. Á sunnudag fagnaði Keflvíkingurinn Jóhanna sigri í keppninni og hafði hún fengið frí í skólanum á mánudeginum til þess að jafna sig á
herlegheitunum og ræða aðeins við fjölmiðla. „Ég var bara mjög hress og kát eftir sigurinn. Ég fór heim og hafði það gott með fjölskyldunni. Það var mjög erfitt að sofna eftir keppnina og ég svaf held ég í bara fimm klukkutíma,“ sagði Jóhanna létt í spjalli við VF. Jóhanna fékk frábærar móttökur
þegar hún mætti í skólann eftir sigurinn. „Það voru allir að knúsa mig, heilsa mér og kyssa mig á kinnina og allir voru forvitnir um keppnina.“ Nánar er fjallað um afrek Jóhönnu Ruthar í blaðinu í dag en einnig er birt viðtal við hana í Sjónvarpi Víkurfrétta sem er á dagskrá ÍNN í kvöld.
n Um 150 liðsmenn taka þátt í loftrýmisgæslu Nató með komu flugsveitar bandaríska hersins. Fjórar F-15C orrustuþotur hafa látið til sín taka yfir Suðurnesjum og víðar að undanförnu. VF-mynd: Hilmar Bragi
Fjármunir af sölu eigna á Ásbrú verði eftir á svæðinu l Á þriðja hundrað starfsmenn við byggingu kísilvers United Silicon Allur búnaður fyrir kísilver United Silicon ásamt byggingarefni til að ljúka byggingu kísilversins er kominn til Helguvíkur. Því var fagnað sl. föstudag að 90 dagar eru þar til framkvæmdum á að ljúka við byggingu kísilversins sem síðan hefur framleiðslu 15 dögum síðar. Magnús Garðarsson, framkvæmdastjóri United Silicon, sagðist vongóður á að tímaramminn muni standast nú þegar allt sem þarf til að ljúka byggingunni og uppsetningu verksmiðjunnar væri komið á framkvæmdastað. Starfsmönnum á framkvæmdasvæði United Silicon var gerður dagamunur sl. föstudag en nú vinna 205 starfsmenn að uppbyggingu kísilversins, auk tólf starfsmanna á skrifstofu United Silicon.
Eignir á Ásbrú, gamla varnarsvæðinu, fyrir 11,5 milljarða hafa nú þegar verið seldar. Það eru um 60 prósent húsnæðis á svæðinu, í fermetrum talið. Fasteignamat þeirra eigna sem á eftir að selja er um 7,5 milljarðar. Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á þriðjudag lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks fram bókun þess efnis að gerð verði krafa til ríkisins um að stórum hluta söluverðmætis eigna á Ásbrú verði varið til uppbyggingar á nærþjónustu á svæðinu. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur óskað eftir afstöðu Reykjanesbæjar til sölu á eignum á Ásbrúarsvæðinu. Að sögn Kjartans Þórs Eiríkssonar, framkvæmdastjóra Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, á nú eftir að selja um 300 einingar af þeim 900 fjölskylduíbúðum sem eru á Ásbrú og um 300 af þeim 1100 einstaklingsíbúðar/-herbergja einingum sem þar eru. „Einnig er nokkuð eftir af verslunar-, þjónustu- og iðnaðarhúsnæði,“ segir hann. Allir kaupendur íbúðar- og atvinnuhúsnæðis á Ásbrú hafa verið leigufélög. Kjartan segir áætlanir
FÍTON / SÍA
90 dagar eftir af framkvæmdum
l Eignir fyrir 11,5 milljarða þegar seldar l 60% húsnæðis á svæðinu
einföld reiknivél á ebox.is
Kadeco um mótun samfélags á Ásbrú gengið eftir og að miðað við ástand á fasteignamarkaði undangenginna ára sé allt á áætlun. Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, er í eigu ríkisins og segir Kjartan Kadeco hafa skilning á afstöðu þeirra sem vilja að meirihluti fjármagns af sölu eigna á Ásbrú verði eftir á svæðinu en að á endanum verði það eiganda fjármunanna, það er ríkisins, að ákveða hvernig þeim verði varið. Eftirfarandi er bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks í Reykjanesbæ sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 5. apríl: Við brotthvarf bandaríska varnarliðsins haustið 2006 stofnaði ríkið Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. og fól því að annast umsýslu fasteigna ríkisins á svæðinu og önnur verkefni sem tengjast framtíðarþróun þess. Við höfum séð svæðið þróast mikið í kringum Keili, frumkvöðlasetrið og gagnaver svo eitthvað sé nefnt og nú er svo komið að mikið af íbúðahúsnæðinu eru selt. Mikill áhugi er meðal fjárfesta og fyrirtækja í flugtengdum rekstri að nýta enn meira af því hús-
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
næði sem eftir er. Ásbrú er óðum að festa sig í sessi sem eitt af stærri hverfum Reykjanesbæjar og er löngu tímabært að við lítum til þess hvernig við sem sveitarfélag munum þjónusta og þróa þetta hverfi til framtíðar. Í bréfi Fjármála- og efnahagsráðuneytisins er farið fram á afstöðu Reykjanesbæjar til sölu á eigna á Ásbrúarsvæðinu. Við Sjálfstæðismenn gerum þá kröfu til ríkisins að stórum hluta söluverðmætis þessara eigna verið varið til að byggja upp nærþjónustuna á svæðinu. Reykjanesbær hefur byggt upp grunnskóla og tvo leikskóla á þessu svæði með tilheyrandi kostnaði og taka verður tillit til þessa þegar fjármunum sem myndast í Þróunarfélaginu verður úthlutað.
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
2
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 7. apríl 2016
Bíða með endanlegar ákvarðanir með gúmmíkurlsvelli Fulltrúar Sandgerðisbæjar fylgjast með framvindu mála er varðar gúmmíkurl á gervigrasvöllum og hafa kannað möguleika á úrbótum. Gervigrasvöllur með gúmmíkurli var settur upp við íþróttamiðstöðina og grunnskólann í Sandgerði árið 2009. Á vef Sandgerðisbæjar segir að ýmis vinna hafi farið fram hjá bæjarfélaginu eftir að erindi frá Heimili og skóla í september 2015, þar sem stjórn landsamtakanna fór fram á það við sveitarfélög að gervigrasvellir þar sem notað er gúmmíkurl úr dekkjum verði endurnýjaðir í ljósi upplýsinga um að slíkt dekkjarkurl innihaldi krabbameinsvaldandi efni. „Nú liggur fyrir til samþykktar þingsályktunartillaga sem miðar að
gúmmíkurli úr dekkjum verði skipt út fyrir hættuminni efni á þeim leikog íþróttavöllum sem þar er nú að finna. Samband Íslenskra sveitarfélaga hefur bent á að ekki liggur fyrir hvaða gúmmíefni uppfylla skilyrði að vera viðurkennd og telja að það hljóti að vera grundvallarforsenda fyrir því að hægt sé að fá niðurstöðu í málið til framtíðar. Sambandið ráðleggur sveitarfélögum að fylgjast vel með framvindu málsins og mögulega bíða með endanlegar ákvarðanir þar til niðurstaða liggur fyrir. Sandgerðisbær mun halda áfram að vinna að málinu, fylgjast með umræðunni og möguleikunum áður en gripið verður til aðgerða,“ segir á vef bæjarins.
Styttist í að beinar rútuferðir til Akureyrar frá Keflavíkurflugvelli Beinar áætlunarferðir Gray Line milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar hefjast sunnudaginn 17. apríl næstkomandi. Í apríl og maí verður ekið þrisvar í viku en daglega yfir sumarið fram í miðjan september. Á leiðinni milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar verður stoppað fyrir farþega í Borgarnesi, Staðarskála, Blönduósi og Varmahlíð. Eingöngu verður stoppað á viðkomandi stöðum ef farþegi hefur bókað far á vefsíðu Gray Line eða á sölustöðum fyrirtækisins. Ávallt verður að bóka far fyrirfram. Langferðabifreiðin sem verður notuð í aksturinn milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar.
Upphaflega var áformað að hefja aksturinn 3. apríl en því þurfti að fresta vegna óvæntra tafa við innleiðingu á nýrri bókunarvél á netinu. Lúxusrútur úr flota Gray Line annast ferðirnar. Þær eru með salernum og veitingaaðstöðu ásamt internetteningu og tveir bílstjórar verða ávallt með í för til að tryggja gæði þjónustunnar. Áætlun Gray Line Airport Express er uppbyggð þannig að flugfarþegar sem koma til landsins síðdegis komast norður í land fyrir miðnætti og farþegar að norðan komast beint í morgunflug.
Bílarnir eru með salernum og veitingaaðstöðu ásamt internetteningu.
Bílvelta eftir árekstur á Reykjanesbraut ■■Páskahátíðin fór vel fram í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum og engin stórvægileg mál komu til hennar kasta yfir hátíðisdagana. Bílvelta varð á Reykjanesbraut þegar tvær bifreiðar lentu saman. Ökumenn beggja sluppu ómeiddir, en fjarlæga varð bifreiðina sem valt, með dráttarbifreið. Þá voru fimm ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur, flestir á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók mældist á 128 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Loks voru höfð afskipti af fáeinum ökumönnum vegna gruns um fíkniefnaakstur.
Ferðamenn finna bara yfirgefin kaffihús ■■Ferðamenn koma bara að tómum kofanum þegar þeir ætla á kaffihús við Hafnargötuna í Keflavík. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, vakti athygli á því á fésbókinni að hann hafi fengið ábendingu frá ferðamönnum, sem óku Hafnargötuna í leit að kaffihúsi, um að við hana væru a.m.k. 6 staðir merktir sem kaffihús eða veitingastaðir en án starfsemi og ferðafólkið hafi endað í 10-11. „Væri ekki ráð fyrir þá sem eiga þessi húsnæði að taka niður skiltin,“ spyr bæjarstjóri á fésbókinni. Nokkuð fjörugar umræður sköpuðust um kaffihúsamenningu bæjarins og hvernig væri að lifa af í þeim heimi. Margir virðast sakna kaffihúss á horni Hafnargötu og Tjarnargötu þar sem síðast var staðurinn Stefnumót og áður verslun Hljómvals. Þá hafa komið ábendingar um nokkur kaffihús í bæjarfélaginu, s.s. í ráðhúsi Reykjanesbæjar, Kaffi Petit, Kaffitár á Fitjum og Park-Inn hótelið. Þá sé hægt að fá kaffi á veitingastaðnum Lemon.
DS afsali Garðvangi til Sveitarfélagsins Garðs ■■Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti í síðustu viku samhljóða svohljóðandi bókun sem Bergur Álfþórsson bæjarfulltrúi lagið fram: „Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga leggur til að DS afsali eignarhlut sínum í Garðvangi til Sveitarfélagsins Garðs og felur fulltrúa sínum í stjórn DS að leggja fram tillögu þess efnis á næsta stjórnarfundi DS.“ Málefni Garðvangs hafa verið nokkuð til umfjöllunar síðustu misseri. Þar var rekið hjúkrunarheimili á vegum Dvalarheimila aldraðra á Suðurnesjum til fjölda ára. Starfsemin á Garðvangi var svo lögð niður og heimilisfólk flutt á hjúkrunarheimilið að Nesvöllum í Reykjanesbæ. Bæjaryfirvöld í Garði hafa lagt á það áherslu að á Garðvangi verði rekið hjúkrunarheimili. Ljóst er að ráðast þarf í kostnaðarsamar breytingar á húsakosti að Garðvangi svo þar verði aðstaða og aðbúnaður sem stenst kröfur dagsins í dag. Bæjaryfirvöld í Garði hafa einnig áréttað að skv. deiliskipulagi sveitarfélagsins sé gert ráð fyrir opinberri þjónustu á þeim reit þar sem Garðvangur stendur og því ekki inni í myndinni að húsakosti verði breytt í hótel eða gistiheimili.
Við stækkum – stækkið með okkur
Við leitum að metnaðarfullu starfsfólki sem á það sameiginlegt með okkur að hafa óbilandi þörf og metnað til að gleðja gesti okkar og skapa ævilangar minningar. Um framtíðarstörf er að ræða. Nánari upplýsingar um störfin veitir Kolbrún Magnúsdóttir, sérfræðingur á mannauðssviði, í síma 420-8800. Umsækjendur eru beðnir um að senda almenna umsókn í gegnum heimasíðu okkar www.bluelagoon.is/atvinna.
4
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 7. apríl 2016
Tekjur ISAVIA jukust um 4 milljarða í fyrra ●●Yfir eitt þúsund manns starfa hjá félaginu, lang flestir á Keflavíkurflugvelli Rekstur Isavia gekk vel á árinu 2015 eins og undanfarin ár. Heildartekjur Isavia samstæðunnar á árinu námu 26 milljörðum króna sem er aukning um 4 milljarða eða 18% frá árinu 2014. Rekstrarafkoma fyrir fjármagnsliði nam um fjórum milljörðum króna og jókst um 671 milljón milli ára en aðalfundur félagsins var í sl. viku. Heildarafkoma ársins 2015 var jákvæð um 3,1 milljarð króna sem er um 876 milljónum króna betri afkoma en árið 2014. Þennan mun má að hluta rekja til gengisáhrifa af erlendum langtímalánum en stærri hluta má rekja beint til bættrar afkomu af rekstri samstæðunnar. Þessi góða afkoma félagsins skiptir miklu máli til þess að hægt sé að halda áfram þeirri uppbyggingu sem stendur yfir á Keflavíkurflugvelli og notendur flugvallarins kalla eftir. Heildareignir samstæðunnar námu 45,2 milljörðum króna í árslok 2015 og þar af eru 37,2 milljarðar króna tilkomnir vegna fastafjármuna. Alls námu fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum 7,6 milljörðum króna og þar af eru 6,5 milljarðar króna tilkomnir vegna fjárfestinga á Keflavíkurflugvelli. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 44,6% í lok árs 2015 samanborið við 41,8% árið á undan og heldur því áfram að hækka. Við stofnun félagsins árið 2010 var eiginfjárhlutfallið 24,6%. Staða handbærs fjár í lok árs 2015 var um 5,0 milljarðar króna. Rekstur samstæðunnar skilaði áfram sterku sjóðstreymi, en handbært fé frá rekstri árið 2015 nam 6,3 milljörðum króna sem er aukning upp á um 1,7 milljarð króna frá sama tímabili í fyrra. Þá jókst meðalfjöldi starfa hjá samstæðunni um 11% og var 1.017 störf árið 2015 samanborið við 914 störf árið 2014. Þar af var meðalfjöldi starfa hjá móðurfélaginu 807 (12,0% aukning), hjá Fríhöfninni 161 (5,6% aukning) og hjá Tern 49 (14,0% aukning). Frá stofnun Isavia hefur afkomu félagsins verið ráðstafað til uppbyggingar sem skilað hefur heilbrigðum rekstri og góðri arðsemi. Félagið mun
Rekstur Isavia gekk vel á árinu 2015 eins og undanfarin ár.
ekki greiða arð vegna ársins 2015 fremur en undanfarin ár enda mikið uppbyggingarstarf framundan hjá félaginu, sérstaklega á Keflavíkurflugvelli. Ákvörðun um að endurfjárfesta afkomu ársins í uppbyggingu og verðmætasköpun innan félagsins er einkar vel til þess fallin að styðja enn frekar við vöxt ferðaþjónustunnar.
Hátt í milljarður til ríkisins í formi beinna skatttekna
Árið 2016 greiðir samstæða Isavia um 481 milljón króna í tekjuskatt. Þá skilaði Fríhöfnin um 452 milljónum króna í áfengis- og tóbaksgjald til ríkissjóðs og hefur því skilað alls um 1,8 milljarði króna frá árinu 2011, til ríkissjóðs í formi fyrrnefndra gjalda. Framlag Isavia til ríkisins í formi greiddra og innheimtra skatta nam 5,2 milljörðum króna á síðasta ári, og hækkaði úr 4,4 milljörðum króna frá árinu 2014.
Mikið uppbyggingarskeið á Keflavíkurflugvelli
Ljóst er að Isavia gegnir þýðingarmiklu hlutverki í uppbyggingu ferðaþjónustunnar á Íslandi. Félagið stendur í miklum og kostnaðarsömum framkvæmdum sem munu halda áfram á komandi árum til þess að mæta auknum fjölda erlendra ferðamanna. Mörg tækifæri eru framundan og þeim fylgja stórar ákvarðanir. Ríkisvaldið, sem fer með eignarhald á Isavia og er stór þjónustukaup-
andi, stendur því frammi fyrir stórum ákvörðunum, ekki eingöngu hvað varðar framtíðaruppbyggingu Keflavíkurflugvallar heldur einnig hvað varðar þjónustustig í flugsamgöngum innanlands til framtíðar.
Framsækin dótturfélög
Dótturfélög Isavia eru Fríhöfnin og hugbúnaðarfyrirtækið Tern Systems. Fríhöfnin hefur hlotið margar viðurkenningar og meðal annars verið valin besta fríhöfn í Evrópu. 161 manns starfa hjá félaginu. Tern Systems hefur í yfir 25 ár hannað og framleitt hugbúnað til flugumferðarstjórnar og þjálfunar flugumferðarstjóra og er með kerfi uppsett og í notkun hér á landi og víða í Evrópu, Asíu og Afríku. Hjá fyrirtækinu starfa 49 manns auk þess sem mikið af þekkingu og reynslu er sótt til móðurfélagsins eftir þörfum og verkefnum.
Fjárfest fyrir 17 milljarða Þegar Isavia var stofnað árið 2010 var eiginfjárhlutfallið 24,6% og fjárhagslegur styrkleiki hins nýstofnaða félags því ekki sérstaklega mikill. Í lok árs 2015 stóð eiginfjárhlutfallið hins vegar í 44,6% sem er eftirtektarverður árangur í ljósi þess að uppbygging eiginfjárhlutfallsins hefur að öllu leiti átt sér stað úr rekstri. Á sama tímabili hefur félagið fjárfest fyrir tæplega 17 milljarða króna og staða langtímalána er svipuð og hún var í lok stofnársins. Þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar, sem kynnt var síðastliðið haust, gerði ráð fyrir að farþegafjöldi árið 2019 yrði rúmlega 6,5 milljónir en
Stjórn félagsins
Fjármálaráðherra fer með eignarhald félagsins fyrir hönd ríkissjóðs. Í stjórn voru kosin Theódóra Þorsteinsdóttir, Ingimundur Sigurpálsson, Matthías Páll Imsland, Sigrún Traustadóttir og Ragnar Óskarsson. Í varastjórn voru kosin Friðbjörg Matthíasdóttir, Jens Garðar Helgason, Jón Norðfjörð, Sigurbjörn Trausti Vilhjálmsson og Tryggvi Haraldsson.
Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.
ATVINNA
Þrjú vilja vera skólastjórar Heiðarskóla
Geo Hotel Grindavík leitar af framtíðarstarfsmanni í starf
■■Þrír einstaklingar sóttu um stöðu skólastjóra Heiðarskóla í Reykjanesbæ sem auglýst var á dögunum. Nöfn umsækjenda eru: Gerður Ólína Steinþórsdóttir, Haraldur Axel Einarsson og Hólmfríður Árnadóttir. Capacent sér um ráðningarferlið fyrir Reykjanesbæ ásamt fræðslustjóra og mannauðsstjóra Reykjanesbæjar.
næturvarðar. Unnið er í 7 nætur, frá 20:00 til 08:00, og svo er frí í 7 nætur á milli. Einnig getum við bætt við okkur fleira sumarstarfsfólki í flestar stöður og einhverjar stöður gætu mögulega verið til framtíðar. Við leitum af fólki sem langar að bætast í okkar frábæra hóp og hefur rétta hugarfarið til að veita gestum okkar einstaka upplifun og þjónustu.
Hæfniskröfur í allar stöður: - Næturvörður þarf að vera 23 ára
eða eldri, en í önnur störf er 17 ára aldurstakmark. - Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi - Bílpróf (og geta/áhugi til að keyra 8 manna, beinskiptan bíl) - Einstök þjónustulund og samskiptahæfileikar - Hæfni til að vinna undir álagi og sjálfstæði í vinnubrögðum - Góð tölvu– og tungumálakunnátta (a.m.k. íslenska og enska) - Stundvísi, glaðværð, kurteisi og snyrtimennska
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn á loa@geohotel.is Geo Hotel Grindavík | Víkurbraut 58 | 240 Grindavík | S: 421 4000 | www.geohotel.is
nýjustu spár benda til þess að þeim farþegafjölda verði náð núna í ár. Ef við tökum árið 2025 sem dæmi þá gerir uppfærð farþegaspá ráð fyrir því að farþegafjöldinn verði sá sami og þróunaráætlunin gerði ráð fyrir að yrði árið 2037. Þessar miklu forsendubreytingar á skömmum tíma búa til verulegar áskoranir til að leitast við að Keflavíkurflugvöllur verði í stakk búinn til að taka á móti öllum þessum fjölda ferðamanna. Það er verkefni sem við erum þegar byrjuð að vinna af krafti en það er þó mikilvægt að vinna þá vinnu af yfirvegun og í takt við raunaukningu ferðamanna.
Ungverska flugfélagið Wizz Air hefur hafið flug á milli Keflavíkurflugvallar og Budapest í Ungverjalandi.
Wizz Air flýgur til Keflavíkur Ungverska flugfélagið Wizz Air hefur hafið flug á milli Keflavíkurflugvallar og Budapest í Ungverjalandi. Budapest er annar áfangastaður Wizz Air frá Íslandi en félagið flýgur einnig til Gdansk í Póllandi. Í maí á þessu ári bætir félagið þriðja áfangastaðnum við, Varsjá í Póllandi. Flogið verður tvisvar í viku til Budapest, á miðvikudögum og sunnudögum, allt árið um kring.
Wizz Air er sem áður segir ungverskt flugfélag og stærsta lággjaldaflugvélagið í Mið- og Austur-Evrópu. Félagið hóf flug á milli Gdansk og Keflavíkurflugvallar í júní í fyrra, fyrst tvisvar í viku en fjölgaði ferðum fljótlega upp í þrjár. Nú bætist annar áfangastaðurinn við og sá þriðji, Varsjá, í maí. Það er því ljóst að félagið bindur miklar vonir við Ísland sem áfangastað.
Með kannabis, lyf og stera í bílnum ■■Lögreglan á Suðurnesjum handtók í síðustu viku ökumann vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna. Megn kannabislykt barst úr bifreiðinni þegar lögreglumenn ræddu við manninn og viðurkenndi hann neyslu kannabisefna. Hann heimilaði leit í bifreið sinni og þar fundust meint kannabisefni, meintir sterar og lyf sem maðurinn gat ekki gert grein fyrir. Við leit á heimili hans, að fenginni heimild, fundust einnig meintir sterar.
markhönnun ehf
NETTÓ KJÚKLINGUR 1/1
696 ÁÐUR 849 KR/KG
-25%
ÍSFUGL BBQ KJÚKLINGALEGGIR
850
FERSKT NAUTA PIPARSTEIK ÍSLENSK
3.449 ÁÐUR 4.598 KR/KG
ÁÐUR 895 KR/KG
-25%
-30% -30%
FERSKT GRÍSAPOTTRÉTTUR Í SVEPPASÓSU
1.980 ÁÐUR 2.329 KR/KG
RÚGBRAUÐ MINNI SYKUR
PRÓTEINBRAUÐ LÁGKOLVETNA
HAFRABRAUÐ LÍFRÆNT
299
384
384
ÁÐUR 398 KR/STK
ÁÐUR 549 KR/STK
ÁÐUR 549 KR/STK
Fínt á grillið
-20%
SS LAMBALÆRI SAGAÐ - FROSIÐ
1.278 ÁÐUR 1.598 KR/KG
DR. PEPPER 33 CL - DÓS
129 STKKR
Tilboðin gilda 7. – 10. apríl 2016 Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
6
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 7. apríl 2016
RITSTJÓRNARPISTILL Eyþór Sæmundsson
MÁ BJÓÐA YÐUR KAFFI? Kaffi hefur verið á milli tanna íbúa Reykjanesbæjar að undanförnu. Ekkert meira eða minna en vanalega en innlegg Kjartans Más bæjarstjóra Reykjanesbæjar á Facebook á dögunum vakti fólk til umhugsunar yfir ástandi Hafnargötunnar. Þar ræddi Kjartan um merkingar fyrir kaffi- og veitingahús sem eru hætt rekstri eða flutt. Einhverjir fóru út fyrir umræðuna og bentu á að kaffi mætti finna hér og þar um bæinn. Það er allt gott og blessað. Mér varð hins vegar hugsað til þess hve döpur Hafnargatan er orðin. Ég hef verið tíður gestur kaffihúsa undanfarinn áratug. Var jafnvel lattelepjandi á tímabili en er nú búinn að færa mig alfarið yfir í svart eins og Kardashian fjölskyldan. Kaffihús snúast um svo mikið meira en bara góðan sopa eða einhverjar gómsætar veitingar. Þetta er samkomustaður þar sem fólk kemur til þess að njóta mannlífs. Hitta vini, halda fundi, sinna hópverkefnum eða bara til þess að hangsa. Þannig upplifi ég kaffihús. Stefnumót var þessi staður á Hafnargötunni. Frábær staðsetning og flottar veitingar. Því miður gekk það ekki upp af ýmsum ástæðum sem ég ætla ekki að rekja hér. Einhverjir bæjarbúar kvarta sáran yfir því að staðurinn sé ekki lengur í gangi. Ég ætla ekki að taka of stórt upp í mig (pláss fyrir Kardashian grín hér) en ég óttast að margir þeirra sem kvarta hafi hreinlega ekki verið nógu duglegir að nýta sér þessa þjónustu þegar hún var í boði. Hafnargatan má muna sinn fífil fegurri. Þar er fjöldi tómra húsa í slæmu ásigkomulagi. Það er ekki boðlegt fyrir svona stórt samfélag og til þess að laða fólk í miðbæinn. Þessi umræða skýtur upp kollinum reglulega og eru skiptar skoðanir um ástæður þess að rekstur gengur illa og af hverju ekkert mannlíf sé á götunni. Ég hef engin svör við því. Ég tel þó að þetta snúist allt um okkar hugarfar. Ef við viljum að þjónusta sem þessi sé til staðar þá verðum við að nýta okkur hana. Eins þarf kraftmikið hugsjónafólk til þess að drífa svona starfsemi áfram. Það er algjört lykilatriði. Það er varla allt flutt í burtu er það? Bærinn okkar verður meira bara svo miklu meira aðlaðandi og heillandi ef hann iðar af lífi bæjarbúa og gesta. Það er ótrúlegt að það gangi ekki að reka kaffihús á einni fjölförnustu götu bæjar sem telur 15.000 íbúa. Þrátt fyrir að hér séu fín kaffihús og veitingastaðir þá held ég að við getum verið sammála um að við teljum Hafnargötuna ennþá vera hjarta bæjarins. Með fullri virðingu fyrir Krossmóa og efri hluta Hafnargötu þá er Hafnargatan niður frá Skólavegi að Duus húsum ennþá flottasta staðsetning bæjarins fyrir mannlífið okkar. Við þurfum bara að vakna til lífsins og þefa af kaffinu.
EFTIRLAUNASJÓÐUR REYKJANESBÆJAR
AÐALFUNDUR 2016 Aðalfundur sjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 14. apríl nk. kl. 16.30. Fundurinn verður haldinn í bæjarstjórnarsal, Tjarnargötu 12. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf skv. 5. grein samþykkta sjóðsins. Breyting á framtíðarrekstrarformi sjóðsins. Umræður – kynning. Sjóðfélagar og lífeyrisþegar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. Stjórn Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar
Dr. Júlíus Friðriksson hefur unnið að rannsóknum á sviði endurhæfinga eftir heilablóðfall.
Heilinn er heillandi
rannsóknarefni
●●Keflvíkingurinn Dr. Júlíus Friðriksson hlaut 1.3 milljarða í rannsóknarstyrk ●●Búsettur í Bandaríkjunum í tvo áratugi en elskar heimaslóðirnar
Keflvíkingurinn Dr. Júlíus Friðriksson, prófessor í talmeinafræði við Suður Karolínu háskóla og samstarfsfélagar hans hlutu á dögunum 11,1 milljón dollara styrk, eða 1.3 milljarða króna frá bandarísku heilbrigðisstofnuninni. Styrkurinn mun nýtast til þess að stofna vísindamiðstöð sem vinnur að rannsóknum á sviði endurhæfinga eftir heilablóðfall. Júlíus hefur verið í Bandaríkjunum í rúmlega 20 ár, þar sem hann hefur unnið að mikilvægum rannsóknum á þessu sviði. Júlíus hefur verið búsettur í Bandaríkjunum frá því snemma á tíunda áratugnum. Hann fór til náms árið 1992 en var alfluttur vestra fjórum árum síðar. „Á þeim tíma var vöntun á talmeinafræðingum og mér leist vel á að leggja þetta nám fyrir mig. Þá var þetta nám bara í boði í Bandaríkjunum og því fluttist ég þangað,“ segir Júlíus. Hann stundaði fyrst nám við University of Central Florida í Orlando en þaðan lá leið hans til Tuscon þar sem hann lærði við Arizona háskólann. Eftir að hann lauk námi árið 2001 bauðst honum starf í Suður Karolínufylki þar sem hann er búsettur ásamt eiginkonu og tveimur dætrum. Júlíus segist kunna vel við sig í Bandaríkjunum en hann kemur reglulega á heimaslóðir til þess að hlaða rafhlöðurnar.
Spennandi og gefandi starf
Talmeinafræðin er að sögn Júlíusar afar spennandi og gefandi starf. „Eina ástæðan fyrir því að ég kom aldrei heim er sú að ég fór út í þessi vísindi en það er erfitt að gera svona rannsóknir eins og ég fæst við á Íslandi. Þú þarft mikið af peningum og nógu mikið úrtak sjúklinga til þess að nýtast í rannsókninar.“ Rannsóknirnar eiga að mestu hug Júlíusar en hann er prófessor og kenndi taugavísindi við háskólann í South
Carolina á sínum tíma. „Ég fór smám saman að færa mig meira í rannsóknir sem ég sinni mest í dag og kenni því mjög lítið. Ég hef ótrúlega gaman af þessu og finnst þetta gefandi starf. Það að vera að svara spurningum sem kannski enginn hefur svarað áður er alltaf spennandi. Þú hefur möguleika á að vinna með fjölmörgu fólki og það er alltaf eitthvað nýtt við að fást. Rannsóknirnar eru alltaf að breytast og verða viðameiri og því fær maður aldrei leið á þessu.“ Í starfi sínu rannsakar Júlíus fyrst og fremst sjúklinga sem hafa orðið fyrir heilaskaða. Hann og samstarfsfólk hans reynir að bæta bata þessara sjúklinga. „Við viljum reyna að skilja heilann betur og þá sérstaklega eftir heilaskaða.“ Styrkurinn sem Júlíus og samstarfsfólk hlaut mun nýtast vel við einmitt þessar rannsóknir. „Styrkurinn gerir okkur kleift að gera þessa rannsókn á miklu stærra sviði. Ef þú vilt fá að vita um eitthvað meðaltal þá þarf úrtakið að vera sem stærst til þess að niðurstöður séu sem áreiðanlegastar.“ Júlíus er mikið á ferðinni í sínu starfi bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. „Það er mikil vöntun á að bæta líf þessara sjúklinga því það er mjög mikið af þeim. Þetta er mjög gefandi og vinnan virðist vera alveg endalaus.
Júlíus hefur staðið fyrir rannsóknum á Íslandi og gefið út greinar um rannsóknir sínar. Þegar hann er á heimaslóðum þá ræðir hann við talmeinafræðinga og er í góðu sambandi við þá.
Körfubolti og sveitasæla
Heimahagarnir toga reglulega í Júlíus og fjölskyldu en Júlíus heldur góðu sambandi við gömlu félagana úr Keflavík. Stelpurnar hans eru vanar að heimsækja ættingja hér heima og gjarnan verja þau jólunum á Íslandi. Á sínum tíma var Júlíus liðtækur í körfuboltanum og spilaði með meistaraflokki Keflavíkur í nokkurn tíma. „Það var gífurlega góður tími. Ég get ekki sagt að ég sé mjög vel inn í körfunni núna en þetta engu að síður það sem fjölskyldan heima ræðir um. Hvernig körfu- og fótboltaliðinum gengur og þar fram eftir götunum. Maður fylgist líka vel með á Facebook.“ Körfuboltaáhuginn er sannarlega enn til staðar. „Ég fer helst árlega til Arizona í gamla háskólann minn og horfi á leiki með gömlu skólafélögunum,“ en skólinn er þekktur fyrir gott körfuboltalið. Júlíus hefur gaman af því að losna frá amstri dagsins og kíkja í sveitasæluna á Íslandi. „Mér finnst alltaf gott að koma heim og heimsækja bústað foreldra minna í Borgarfirði. Þar er rólegt og gott, mér finnst alltaf gott að vera á Íslandi,“ segir Dr. Júlíus að lokum.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
NÝR MITSUBISHI OUTLANDER INTENSE
TILFINNINGIN ER ÓLÝSANLEG ÞAR TIL ÞÚ PRÓFAR
Mitsubishi Outlander Intense er kominn með nýtt útlit. Betur búinn fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll er vandfundinn og ekki skemmir verðið fyrir. Komdu í reynsluakstur og fáðu tilfinninguna sem svo erfitt er að lýsa – jafnvel eftir að þú prófar. Mitsubishi Outlander Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn frá:
5.390.000 kr. FYRIR HUGSANDI FÓLK HEKLA · Njarðarbraut 13 · Reykjanesbæ · Sími 590 5090 · heklarnb.is
8
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 7. apríl 2016
Lífið með Lindu Maríu
Komum út að leika Fulltrúar Oddfellowstúknanna og forráðamenn HSS í nýja líknarherberginu. VF-myndir/pket.
Oddfellowar gefa HSS líknaraðstöðu Oddfellowreglan á Suðurnesjum afhenti Heilbrigðisstofnun Suðurnesja nýja líknaraðstöðu sem hún lét útbúa en fjórar stúkur innan hennar stóðu saman að þessari veglegu gjöf. Oddfellowreglan á Suðurnesjum fagnar 40 ára afmæli á þessu ári en elsta oddfellowstúkan í Keflavík, Njörður, var stofnuð 6. mars 1976. Auk hennar eru gefendur oddfellowstúkan Jón forseti og Rebekkustúkurnar Steinunn og Eldey. Sérstök aðstaða fyrir líknardeild hefur ekki verið starfrækt áður hjá HSS og er þessi aðstaða því góð viðbót við þá þjónustu sem stofnunin veitir í heimabyggð. Aðstaðan var útbúin með það af markmiði að gera sjúklingum, fjölskyldum þeirra og vinum vistina sem besta á erfiðum tímum. Hún er tæpir 70 fermetrar, herbergi og setustofan. Aðstaðan er gjöf Oddfellowstúknanna og í henni eru endurinnréttuð setustofa, herbergi og bað sem sérstak-
lega er ætlað sem líknaraðstaða þar sem legudeild HSS mun bjóða upp á líknarmeðferð. Auk þess gefa stúkurnar hús- og tækjabúnað sem notaður er fyrir líknarmeðferðir. Verðmæti gjafarinnar er um 8 milljónir króna. Fulltrúar stúknanna fjögurra ásamt mörgum félögum þeirra sem og forráðamenn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja voru viðstaddir formlega afhendingu gjafar innar sl. þriðjudag. Halldór Jónsson, forstjóri HSS, þakkaði fyrir veglega gjöf og sagði hana mikilvæga viðbót við þjónustu HSS en líknaraðstaða hefur ekki verið til staðar hjá stofnuninni. „Við erum ákaflega þakklát Oddfellowum að leggja okkur og samfélaginu gott lið með þessari veglegu gjöf. Þörfin fyrir þetta er mikil, verkið er vel heppnað og aðstaðan mun nýtast sjúklingum og aðstandendum mjög vel,“ sagði Halldór.
Setustofan sem tengist líknarherberginu hefur verið endurnýjuð en hún snýr út að skrúðgarðinum í Keflavík.
Herbergið er heimilislegt og búið öllum helstu tækjum og þægindum sem þykja nauðsynleg í svona aðstöðu.
Vordagar 7. - 11. apríl
2a 0% fsláttur
af öllum skóm á vordögum
Hafnargata 29 - s. 421 8585
Haldlögðu amfetamín og kannabis ■■Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á nokkurt magn amfetamíns og kannabisefna í húsleit sem gerð var í umdæminu nýverið, að fenginni heimild. Á öðrum stað fundust einnig fíkniefni sem talin eru hafa verið ætluð til sölu og dreifingar. Þá voru tveir einstaklingar til viðbótar staðnir að vörslu á kannabisefnum. Annar þeirra framvísaði efninu en hinn kastaði poka með kannabisefnum út úr bifreið, sem lögregla stöðvaði við hefðbundið umferðareftirlit. Lögreglan á Suðurnesjum stendur nú að áhersluverkefni sem felst í því að uppræta framleiðslu fíkniefna í umdæminu og stöðva sölu og dreifingu fíkniefna.
Nú er vorið handan við hornið, er ekki í lagi að segja það? Öll þessi hret að baki og nú tekur við sumarið og sólin. Er í lagi að segja það? Svo virðist sem að í hvert sinn sem maður leyfir sér að segja þessa setningu þá mætir manni hvít jörð næsta morgun. Þó það sé svo fallegt einhvern veginn þegar snjórinn liggur yfir öllu þá er komið gott af því. Ég finn það á sjálfri mér hversu tilbúin ég er í sumarið. Grillið er farið að fá smá útitíma, svalahurðin fær að vera opin í lengri tíma í senn og maður er farinn að heyra hlátrasköllin í börnunum í hverfinu. Þau minna mig alltaf á tímana þegar ég var lítil, þá lék maður sér í hverfinu frá morgni til kvölds. Þessi tími er dásamlegur, nú fer maður að velta fyrir sér hvar sé best að byrja á að reita arfann, hvort tréin séu nokkuð rytjuleg og kústurinn fer af stað í kringum húsið. Þar sem við búum er himnaríki fyrir þá sem hafa græna fingur. Hér eru tréin há og fögur og laufin virðast óendanleg. Hér er af nægu að taka hafi menn áhuga á því. Ég er mikið að velta þessu fyrir mér þegar ég helli upp á rjúkandi kaffibollann, hvar ætli sé sniðugast að byrja. Þar sem við höfum búið síðustu árin hefur ekki verið mikið af trjám, í raun engin þegar ég hugsa út í það. Þegar við byggðum okkur hús fyrir nokkrum árum þá var það eitt af aðalatriðunum mínum þegar kom að útliti hússins. Hvar við ættum að vera með tré og hvernig tré við ættum að hafa í kringum húsið. Heildar útlitið skipti ekki minna máli en skipulagning innan húss. Ég hef nefnilega alltaf verið með ímynd í huga mínum um sumarkvöldin þar sem börnin okkar eru að leik með vinum sínum í hverfinu og við hjónin að sinna garðverkum. Jafnvel að virkja þau með okkur í garðvinnuna. Stundirnar með börnunum eru ógleymanlegar og alltaf eitthvað sem hægt er að gera saman. Oft er ekki annað sem þarf til en að hreinlega setjast niður með þeim og spyrja hvað þau langi til að gera. Á þessari tölvuöld er ögrunin alltaf að minnka og útitíminn nánast enginn. Vorið er hreint yndislegur tími, nú tekur við nýtt upphaf og bjartir tímar framundan. Við fjölskyldan erum strax farin að huga að samverustundum þegar sól hækkar á lofti. Um helgina spiluðum við körfubolta niður á körfuboltavelli í Holtaskóla. Markmið fjölskyldunnar fyrir þetta sumarið er að fara meira út saman og skapa minningar. Hér í Reykjanesbæ er allt sem til þarf þegar kemur að samverustundum og hreyfingu. Fótboltavellir og útisvæðin eru til fyrirmyndar og hreinlega kalla á krakkana að koma og leika. Þar til ég get farið að reita arfa þá finnið þið mig fyrir framan einhverja körfuna, rifjandi upp gamla takta á þriggja stiga línunni. Ást og friður Linda María
Mexíkó kjúklingasúpa
2verð7læ0kkkur.n
ktar r í bita og stei ringur skorna 4-5 kjúklingab ta ika skorin í bi 1 rauð papr ta ika skorin í bi pr pa 1 græn ar sneiðar nn þu í r orna 2 gulrætur sk ar sneiðar skorin í þunn 1/2 blaðlaukur r ði irar saxa 4-5 hvítlauksge ður xa sa ur uk 1 la ð. (má sleppa) rautt chili saxa a eð nt æ gr 1 r tómatar 1 dós saxaði fti af kjúklingakra ar ng ni te 1 1/2-2 2-3 tsk karrý 2,5 lítri vatn 1 peli rjómi tómatsósu af Heinz chili 1-1 1/2 krukka maostur 100-150 g rjó eftir smekk. r Salt og pipa
2stk
159
í pakka
kr. pk.
Euro Shopper Hvítlauksbrauð, 2 stk.
ítalskir Tómatar
1.279 n in t a m kr. 900 g d l Gott í kvö luna Euro Shopper Kjúklingabringur og veis
Frosnar, 900 g - Verð áður 1549 kr.
79
279
Euro Shopper Tómatar Saxaðir, 400 g
Heinz Chili Sauce 340 g
kr. 340 g
kr. 400 g
SPARAÐU MEÐ BÓNUS 4stk
1Ís0lens0kt%
80 g
ungnautahakk
549
kr. 2x120 g
579
Appelsín
359 kr. pk.
198
Íslandsnaut Ungnautaborgarar 4x80 g
Bónus Pepperoni, 153 g
Bónus Samlokuskinka, 237 g
kr. 4x80 g
kr. 2x140 g
Íslandsnaut Ungnautaborgarar 2x120 g eða 2x140 g
R LífrænA ur
598
frá spáni
359
98
kr. 1 kg
Lífrænar Appelsínur 1 kg, Spánn
Lífræn epli
kr. pk.
kr. 40 g
Pringles Snakk 40 g, 3 teg.
r Lífræna ur gulræt
498 kr. 4 stk.
398
Juliet Lífræn Epli 700 g, 4 stk. í pakka
Lífrænar Gulrætur 800 g, Danmörk
kr. 800 g
98
kr. 145 g
98
kr. 100 g
Maryland Kex 145 g, 4 tegundir
Euro Shopper Súkkulaði 100 g, 5 teg.
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 10. apríl eða meðan birgðir endast
10
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 7. apríl 2016
LAUS STÖRF Sérkennari, íslenskukennari og umsjónarkennarar. Heiðarskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngstaog miðstigi, sérkennara og íslenskukennara á unglingastigi næsta skólaár. Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Sóley Halla Þórhallsdóttir, skólastjóri, í síma 420-4500 eða 894-4501 og Haraldur Axel Einarsson, aðstoðarskólastjóri, í síma 420-4500 eða 698-7862. Umsjónarkennarar. Myllubakkaskóli óskar eftir umsjónarkennurum næsta skólaár. Hluti af stöðunum eru afleysingarstöður vegna barneignaleyfa. Umsóknarfrestur er til 25. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Bryndís Guðmundsdóttir, skólastjóri í síma 420-1450 eða 897-4252. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið bryndis.b.gudmundsdottir@ myllubakkaskoli.is. Íþróttakennari, íslenskukennari, stærðfræðikennari og umsjónarkennarar. Njarðvíkurskóli óskar eftir umsjónarkennurum til starfa næsta skólaár á yngra-/miðstigi, einnig íþróttakennara, íslensku- og stærðfræðikennara á unglingastigi. Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri, í síma 4203000/8632426 eða í gegnum tölvupóst: asgerdur.thorgeirsdottir@njardvikurskoli.is. Náttúrufræðikennari, sérkennari og umsjónakennarar. Akurskóli óskar eftir umsjónarkennurum á yngsta- og miðstigi fyrir næsta skólaár, einnig náttúrufræðikennara á elsta stigi og sérkennara. Umsóknarfrestur er til 21. apríl nk. Skólaliðar. Þá óskar skólinn eftir skólaliðum til að starfa með nemendum í leik og starfi utan og innan kennslustofu. Nánari upplýsingar veita Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri í síma 420-4550 eða 849-3822 og Gróa Axelsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 420-4550 eða 824-1069. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið sigurbjorg. robertsdottir@akurskoli.is. Leikskólakennari. Heilsuleikskólinn Heiðarsel óskar eftir leikskólakennara í 100% stöðu sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 22. apríl nk. Frekari upplýsingar veitir Ólöf Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 4203131/8917178 eða olof.gudmundsdottir@ heidarsel.is. Umsóknum í öll ofangreind störf skal skila rafrænt á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stornkerfi/lausstorf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin og kröfur til umsækjenda.
ÖKUM VARLEGA Með vorkomu og hækkandi sól má búast við fleiri börnum að leik á opnum svæðum og við umferðargötur. Ökum varlega og virðum 30 kílómetra hámarkshraða í íbúðahverfum.
STJARNA ER FÆDD ●●Jóhanna Ruth sigraði í Ísland got talent
Nemendur Myllubakkaskóla tóku Jóhönnu Ruth opnum örmum þegar sigurvegari Ísland got talent söng fyrir samnemendur sína á sal skólans í vikunni. Á sunnudag fagnaði Keflvíkingurinn Jóhanna sigri í keppninni og hafði hún fengið frí í skólanum á mánudeginum til þess að jafna sig á herlegheitunum og ræða aðeins við fjölmiðla. „Ég var bara mjög hress og kát eftir sigurinn. Ég fór heim og hafði það gott með fjölskyldunni. Það var mjög erfitt að sofna eftir keppnina og ég svaf held ég í bara fimm klukkutíma,“ sagði Jóhanna létt í spjalli við VF. Jóhanna fékk frábærar móttökur þegar hún mætti í skólann eftir sigurinn. „Það voru allir að knúsa mig, heilsa mér og kyssa mig á kinnina og allir voru forvitnir um keppnina.“ Jóhanna steig á stokk og söng Tinu Turner slagarann „Simply the best,“ sem færði henni sigurinn á sunnudag. Auðvitað var flutningurinn lýtalaus og nemendur og starfsfólk skólans dilluðu sér með og klöppuðu ákaft. Söngkonan Selma Björnsdóttir stakk upp á því að nota lagið hennar Tinu Turner þar sem það þótti henta rödd Jóhönnu vel. Það reyndist kórrétt.
Ætlar að nota peningana til þess að mennta sig
Hin 14 ára gamla Jóhanna hyggst nota verlaunaféð, sem er tíu milljónir
króna, til frekara tónlistarnáms en hún hefur mikla ástríðu fyrir tónlist og gerir ráð fyrir því að leggja hana fyrir sig í framtíðinni. „Ég er að fara að nota peningana í nám. Mig langar til þess að læra á fullt af hljóðfærum og læra meiri söng.“ Þá langar hana að læra á píanó eða gítar.
Eigum eftir að sjá mikið meira frá þessari stelpu
Hildur María Magnúsdóttir er kennari Jóhönnu og hefur fylgt henni frá því að hún flutti til landsins fyrir fimm árum. „Þetta er einhver undarlegasta tilfinning sem ég hef haft í maganum þegar úrslitin voru tilkynnt. Við vorum gríðarlega spennt og stolt. Hjá mér var þetta ekki vafi. Í úrslitaþættinum voru þau reyndar öll rosalega góð en í mínum huga var þetta
Bókasafn Reykjanesbæjar
KRYDD Í TILVERUNA Auður Rafnsdóttir höfundur bókarinnar Kryddjurtarækt fyrir byrjendur kemur í Bókasafn Reykjanesbæjar þriðjudaginn 12. apríl klukkan 19:30. Kynning og ráðgjöf um kryddjurtaræktun.
SPILUM SAMAN Laugardaginn 9. apríl drögum við spilin fram í safninu og hvetjum gesti og gangandi til að grípa í spil á leið sinni um safnið. Allir hjartanlega velkomnir.
NEED A JOB? AÞ-Þrif is looking for people to hire. Must speak english or icelandic. Preferably between 20–40 years of age. Driving license and clean criminal record is required. Please send application via email at gerda@ath-thrif.is titled “Job”.
Skeiðarási 12 210 Garðabæ
aldrei spurning,“ segir Hildur. Hún segir Jóhönnu frábæran nemanda og að hún hafi aðlagast einkar vel. „Hún small fljótt inn í hópinn. Hún er opin og dugleg manneskja þannig að þetta kom allt fljótt hjá henni.“ Hildur man vel eftir því að hafa heyrt Jóhönnu syngja í frysta sinn. „Það er eitthvað annað að horfa á þessa stelpu syngja. Maður getur ekki ímyndað sér að þessi rödd komi úr þessum kropp, þetta er eiginlega bara fáranlegt. Við eigum eftir að sjá mikið meira frá þessari stelpu, ég er alveg sannfærð um það að hún eigi eftir að blómstra á þessu sviði.“
VINNUR ÞÚ AÐ UMHVERFISMÁLUM? Umhverfissjóður Fríhafnarinnar
Umhverfissjóður Fríhafnarinnar auglýsir eftir umsóknum vegna styrkja á sviði umhverfismála. Umsóknarfrestur er til 24. apríl 2016. Sjóðurinn er fjármagnaður með sölu poka í Fríhöfninni og er tilgangur hans að styrkja samstarfsverkefni í umhverfismálum, sem byggjast á sjálfboðaliðastarfi, frumkvæði félagasamtaka eða einstaklinga í hreinsun, verndun gróðurs, ræktun og verndun svæða eða plöntu- og dýralífs með áherslu á nærsvæði Fríhafnarinnar. Áhugasamir eru hvattir til þess að sækja um styrki á heimasíðu Fríhafnarinnar, www.dutyfree.is/styrkur
12
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 7. apríl 2016
ÆVINTÝRALEGIR
skúlptúrar í Garði ●●Helgi Valdimarsson hefur gert fallega skúlptúra sem eru víðs vegar um Suðurnesin ●●Segir Garðinn svipaðan og Sogamýrina í gamla daga Við hús listamannsins Helga Valdimarssonar í Garði er sannkallaður ævintýragarður því þar er fjöldinn allur af skúlptúrum sem hann hefur skapað á undanförnum árum. Verk eftir Helga má sjá víða um Suðurnesin. Við Garðskagavita er verkið Kona sjómannsins. Helgi segir konur sem mótíf alltaf hafa verið honum hugleiknar enda séu þær betri helmingur mannkyns. „Konu sjómannsins gerði ég til heiðurs formæðrum okkar. Þær sáu um börn og bú og breiddu út saltfiskinn þegar eiginmenn þeirra réru á sjó. Í sumum tilfellum sáu þær líka um nokkrar kindur og jafnvel eina belju. Svo kom karlinn í land og þá var stumrað yfir honum, hann mataður og settur ofan í rúm. Svo rann Sjómannadagurinn upp og þá var hengd metalía á karlinn og eiginkona hans átti ekki að vera fyrir. Ég gerði Konu sjómannsins til að minna á það hvað stendur á bak við hvern sjómann og gerir enn,“ segir Helgi. Þegar keyrt er inn í Garð frá Reykjanesbæ stendur stytta af stóru jagúardýri á lóð við fyrsta húsið vinstra megin og er það eitt af verkum Helga. Þá er stytta af fjórum konum sem horfa í höfuðáttirnar við matvöruverslunina í Garði. Við bryggjuna í Garði er svo styttan Mangi sem er af Magnúsi Tóbíassyni frá Melstað á Akranesi. Hann bjó í Garði og réri manna lengst á opnum bát með árum og segli. Helgi segir Manga hafa verið mjög vel liðinn af fólki í Garði og að hann hafi farið á milli húsa og kíkt í kaffi. Þá eru einnig verk eftir Helga í Connecticut í Bandaríkjunum, í Safnasafninu á Svalbarðseyri og fyrir utan Kaffitár við Reykjanesbraut í Reykjanesbæ.
Heillaður af náttúrunni í Garði Helgi ólst upp í S o g amý r i n n i í Reykjavík. Hann er nú kominn á sjötugsaldur og hefur búið í Garðinum frá árinu 2008. Áður
hafði hann búið í Vogum í 20 ár þar sem hann rak bílaréttinga- og málningarverkstæði. „Þegar ég var ungur drengur var Sogamýrin svipuð og Garðurinn er í dag. Þar var ró og næði. Það má því segja að ég sé kominn í hring. Nú er mikil bílaumferð í Reykjavík og allt mjög breytt. Mér finnst mjög gott að búa í Garði enda er náttúran afskaplega falleg hér. Ég horfi á norðurljósin úr bakgarðinum. Hér eru góðir nágrannar og maður getur hugsað og gert það sem mann langar til að gera á meðan maður hefur heilsu til.“ Helgi segir fólk flest vera þannig að þurfa að alltaf að vera að skapa eitthvað. „Það gefur manni voða mikið. Ég tala nú ekki um það ef maður getur selt eitthvað af verkunum líka. Það hefur gengið ágætlega hjá mér í gegnum árin,“ segir hann.
Bílamálun er list
Eins og áður sagði vann Helgi í mörg ár við bílamálun. Hann segir það fag snúast um list. „Vinur minn heitinn var líka bílamálari og við kölluðum okkur alltaf listamenn. Í þá daga var mikið verið að mála skreytingar á bíla.“ Skúlptúrar og bílamálun eru ekki einu listgreinarnar sem Helgi hefur fengist við því hann nam leiklist sem ungur maður. „Siggi Sigurjóns var ári á undan mér í skólanum og Diddú var með mér í bekk. Síðan lá leiðin í Þjóðleikhúsið þar sem ég lék í Sporvagninum Girnd og hafði mjög gaman af því.“ Síðar lék Helgi svo bifvélavirkjann Hlyn í kvikmyndinni Djöflaeyjunni. Dóttir hans lék einnig í myndinni og léku þau einmitt feðgin. Af verkum Helga er augljóst að sjómennska er honum hugleikin enda þekkir hann hana af eigin raun því
hann fékk sumarstarf á togara þegar hann var aðeins 13 ára gamall. Bróðir hans heitinn var þá 12 ára en laug til um aldur til að fá líka pláss. „Við höfðum nú gaman af þessu svona í aðra röndina en ég hefði ekki sent son minn 13 ára gamlan á sjó. „Þetta var síðutogari sem ég var á og þegar maður stóð frammi á dekki og var að gera að þá var ágjöfin yfir mann og þetta mjög erfitt líf.“ Á þeim tíma þegar Helgi var fyrst á sjó, árin 1963 til 1964 var erfitt að fá fólk til vinnu á togurum og segir Helgi útgerðir hafa beitt ýmsum vafasömum aðferðum til þess. „Þá fór einn frá útgerðinni á rúntinn í leigubíl með brennivínsflösku með sér og náði í karla sem voru á fylleríi. Þá lá togarinn á ytri höfninni og þeir voru teknir í dráttarbátinn og siglt með þá út í skip. Ef þeir voru með læti voru þeir rotaðir. Ég man eftir einum úr sveit sem hafði brugðið sér í bæinn að skemmta sér. Hann hrökk upp með andfælum í jakkafötunum alveg undrandi yfir því hvar hann væri og heimtaði að fá að fara í land. Það var ekki til umræðu og hann fékk að kaupa sér stakk og varð að klára túrinn. Mönnum var bara rænt og ég held að þetta yrði ekki leyft í dag. Svo voru rónar teknir líka á sjó. Þeir voru margir mjög duglegir þegar rann af þeim. Þetta var allt svolítið skrítið,“ segir Helgi um togaramennskuna á þeim tíma.
Vinnur verkin fríhendis
Helgi býr við Urðarbraut 4 í Garði og er þar, eins og áður sagði, heill ævintýragarður af listaverkum. Um síðustu helgi var þar sýning í tilefni af Safnahelgi á Suðurnesjum. Í garðinum eru verk af ljóni í fullri stærð, Mikki mús og Hrafnaflóki svo nokkur séu nefnd. Helgi vinnur verkin úr steinsteypu, gerir allt fríhendis og notar aðeins íslenskt hráefni. Hann gerir verkin á bretti úti í skúr og tekur þau svo út á lyftara. Í hitt eð fyrra fékk garðurinn við heimili Helga verðlaun og í umsögninni kom fram að garðurinn væri mjög ævintýralegur og er ekki annað hægt en að taka undir það.
NÚ HLÝTUR VORIÐ AÐ KOMA!
Helgartilboð TRIUMPH 410 3B gasgrill, 14,4 kW.
99.995
SIESTA 310 3B gasgrill, 14,9 kW.
kr.
84.995
506600032 Almennt verð: 109.995 kr.
kr.
50689231
SPRING 300 Gasgrill 3B, 11,4 kW.
54.995
GRILLPRO gasgrill með gashellu, 8,8 kW.
32.995
kr.
50686930
kr.
50657522
SIGNET 20 gasgrill, 11,7 kW
89.995
kr.
50657504 Almennt verð: 99.995 kr.
EDSON grilltunna, fyrir kol, svört.
36.995
Helgartilboð
Q1200 gasgrill, 2,64 kW.
39.995
kr.
50686010
kr.
50650007
MAJOR kolagrill, svart, 50 cm.
29.995
kr.
50685010
MONARCH 320 gasgrill, 8,8 kW.
Q2200 gasgrill á fótum 3,51kW.
59.990
GEM SUPER gasgrill, 11,5 kW.
69.895
kr.
49.995
kr.
kr.
50657510
50650003
50657518
Reiðhjólahjálmur á börn, nokkrir litir.
2.295
kr.
92420204
STREET RACER reiðhjól 12"
Götureiðhjól, 26” kvenhjól, 6 gíra með brettum, bögglabera og körfu.
TWINKLE reiðhjól 12"
19.995
29.695
19.995
kr.
kr.
kr.
49620059
49620201
49620061
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/ eða myndabrengl. Tilboð gilda til 11. apríl.
Helgartilboð
Helgartilboð
Sorppokar 750x1150 mm, 25 stk.
Helgartilboð
Hekkklippur 56 cm.
1.995
965
kr.
kr.
55530028
53521026
Keðjusög GH-PC 1535 TC, 1,5 kW.
19.995
kr.
74830037 Almennt verð: 23.995 kr.
Prima þrýstikútur, 3 l.
Keðjusög GH-EC 1835. 1800W.
15.995
kr.
74830033 Almennt verð: 19.995 kr.
byko.is
3.995
kr.
55530208 Almennt verð: 5.495kr
AuðvelT að versla á byko.is sendum út um allt land
LUX strákústur með skafti, 40 cm breiður.
995
kr.
68583100
14
VÍKURFRÉTTIR
Vilja leita að gulli á vatnsverndarsvæði ■■Orkustofnun hefur sent bæjaryfirvöldum í Grindavík beiðni um umsögn vegna umsóknar frá Iceland Resources ehf. í Reykjanesbæ um rannsóknarleyfi á nokkrum svæðum á Íslandi, þ.a.m svæði „EL 01“ á Reykjanesi til leitar að gulli. Umrætt svæði er innan Grindavíkur. Skipulagsnefnd Grindavíkur telur ekki líklegt að bætt verði inn nýjum námum í aðalskipulagi Grindavíkur. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að sækja beri um framkvæmdaleyfi fyrir öllum framkvæmdaleyfisskyldum framkvæmdum tengdum verkinu sbr. reglugerð um framkvæmdaleyfi. Innan svæðisins „EL 01“ er mikið af viðkvæmum svæðum m.a. svæði á náttúruminjaskrá, vatnsverndarsvæði, nútímahraun ofl. Skipulagsnefnd Grindavcíkur ítrekar að utanvegaakstur er með öllu óheimill og leggur til við Orkustofnun að erindi Iceland Resources ehf. verði sent Reykjanes Geopark til umsagnar á öllum stigum málsins. Málinu var einnig vísað til umhverfisnefndar Grindavíkurbæjar.
fimmtudagur 7. apríl 2016
N1 notar lífdíselolíu frá Íslensku eldsneyti ■■Fyrirtækið Íslenskt eldsneyti í Reykjanesbæ hefur samið við N1 um viðskipti með vistvæna lífdíselolíu. Íslenskt eldsneyti var stofnað árið 2013 og framleiðir árlega um 1,2 milljón lítra af vistvænu eldsneyti. Á næsta ári er stefnt að því að framleiða 2,5 milljónir lítra. Lífdíselolían verður notuð hjá N1 til íblöndunar í hefðbundna díselolíu. Hingað til hefur N1 nær eingöngu notast við innflutta lífdíselolíu. Framleiðsla Islensks eldsneytis mun þó ekki duga N1 sem mun áfram notast við innflutt íblöndunarefni að hluta.
Sigurður Markús Grétarsson
Jóhann Líndal Jóhannsson
Siggi Markús og Jói Líndal ráðnir til HS Orku Suðurnesjamennirnir Sigurður Markús Grétarsson og Jóhann Líndal Jóhannsson hófu störf hjá HS Orku í mars mánuði síðastliðnum. Sigurður er menntaður tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og starfar sem deildarstjóri upplýsingatækni HS Orku. Áður starfaði Sigurður sem deildarstjóri reikningagerðar hjá Vodafone. Jóhann er löggiltur endurskoðandi með meistaragráðu í reikningshaldi
og endurskoðun frá Háskólanum í Reykjavík. Jóhann starfar sem sérfræðingur á fjármálasviði HS Orku með umsjón með íslenska djúpborunarverkefninu. Jóhann starfaði áður sem verkefnisstjóri á endurskoðunarsviði Deloitte. HS Orka fagnar því að fá til starfa tvo öfluga Suðurnesjamenn í stækkandi hóp starfsmanna fyrirtækisins, segir í tilkynningu.
Íbúð verður tekin undir félagsstarf aldraðra í Grindavík ■■Miðgarður, sem er aðstaða fyrir félagsstarf aldraðra í Grindavík, hefur óskað eftir því að ein stór íbúð á neðri hæð við Austurveg nr. 5 í Grindavík verði tekin undir starfsemi dagvistar aldraðra. Félagsmálanefnd styður tillöguna. Á fundi bæjarráðs Grindavíkur á dögunum fylgdu þau Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Stefanía Sigríður Jónsdóttir málinu úr hlaði. Bæjarráð Grindavíkur styður að tillögunni verði komið til framkvæmda þegar íbúð losnar á jarðhæð Víðihlíðar.
GRILLAÐUR KJÚKLINGUR
899
KR/STK
www.samkaupstrax.is | Tilboðin gilda alla virka daga Hringbraut Keflavík | Opið virka daga: 9 til 22 og helgar: 10 til 22
VILTU VINNA MEÐ OKKUR Í SUMAR? Við erum að leita að starfsmönnum í eftirfarandi störf: Verkefnisstjórum í Starfsskóla
Verkstjóri Sumarvinnu
Ertu skipulagður og jákvæður einstaklingur, 18 ára eða eldri? Viltu fá tækifæri til þess að taka þátt í uppbygginu á skemmtilegum starfsskóla? Við bjóðum þér góða þjálfun og þú færð reynslu í stjórnun, skipulagi og samskiptum sem gæti nýst þér vel í framtíðinni. Ef þér finnst þetta spennandi þá gætum við verðið að leita að þér til þess að starfa með okkur.
Viltu ná þér í góða stjórnunarreynslu sem getur vel nýst þér í námi og starfi í framtíð? Við leitum að einstakling, 20 ára eða eldri, sem er góður í samskiptum, hefur áhuga á umhverfi, er skipulagður, metnaðargjarn, ákveðinn og jákvæður. Við bjóðum góða þjálfun, jákvætt samstarf og handleiðslu. Þetta gæti verið spennandi reynsla og einstakt tækifæri, ef þér líst á þetta þá er um að gera að sækja um hjá okkur.
Stjórnandi í Starfsskóla Ertu skapandi, skipulagður, jákvæður og skemmtilegur einstaklingur, 20 ára eða eldri? Viltu fá tækifæri til þess að taka þátt í uppbygginu á skemmtilegum starfsskóla fyrir unglinga? Við bjóðum þér góða þjálfun og þú færð reynslu í stjórnun, skipulagi og samskiptum sem gæti nýst þér vel í framtíð. Ef þér finnst þetta spennandi þá gætum við verðið að leita að þér til þess að starfa með okkur.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í lok maí 2016 og þurfa að heimila skoðun sakavottorðs. Nánari upplýsingar veita Einar Friðrik Brynjarsson, einar@sandgerdi.is og í síma 420-7509, 899-7505, Rut Sigurðardóttir, rut@sandgerdi.is og í síma 420 7507, 8696169.
Starfsmaður við Sandgerðishöfn
Umsjón með sumarnámskeiðum barna Hefur þú áhuga á og vilt vinna með börnum. Láta hugmyndaflugið, veður og aðstæður ráða því hvað þið eruð að gera í sumar? Við leitum að ferskum og áhugasömum einstaklingi til að hafa umsjón með sumarnámskeiðum fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára í Sandgerði í sumar. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af störfum með börnum, geti skipulagt daglegt starf námskeiðanna og stjórnað ungmennum úr starfsskóla sem verða til aðstoðar á námskeiðunum. Þetta gæti verið spennandi sjálfstætt starf - sæktu um hjá okkur.
Sumarvinna við slátt og hirðingu Þetta er fyrir þig sem hefur áhuga á umhverfinu,vélum og tækjum og ert orðin a.m.k 17 ára. Þú þarft líka að vera sjálfstæður, skipulagður og vandvirkur. Starfið snýst um slátt, hirðingu og fleira fyrir sveitafélagið. Finnst þér þetta spennandi? Sæktu um hjá okkur.
Starfsmaður óskast í fullt starf til sumarafleysinga við Sandgerðishöfn frá 17. maí til 31. ágúst. Starfssvið og hæfniskröfur: Vigtun sjávarafla og skráning í aflakerfi Fiskistofu Almennt viðhald, umhirða og eftirlit á hafnarsvæðinu auk annarra tilfallandi verkefna Góð alhliða tölvukunnátta nauðsynleg Æskilegt er að viðkomandi hafi löggilt vigtarleyfi Rík þjónustulund Starfsmaður gengur vaktir samkvæmt vaktafyrirkomulagi Sandgerðishafnar. Nánari upplýsingar veitir Grétar Sigurbjörnsson verkefnastjóri Sandgerðishafnar í síma 420-7537 eða 899-6306.
Starfsmaður á bókasafn
safnsfræðingi eða öðrum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa á bókasafni bæjarins í sumar. Starfið hentar þeim sem eru sjálfstæðir í vinnubrögðum, áhugasamir um bókmenntir og lestur og málefni líðandi stundu.
Starfsmaður í Þjónustumiðstöð (áhaldahús) Starfsmaður óskast í fullt starf til sumarafleysinga í þjónustumiðstöð Sandgerðisbæjar frá 1. júní - 31. ágúst. Skilyrði er að viðkomandi sé handlaginn, hafi vinnuvélaréttindi og búi yfir víðtækri reynslu af akstri og meðferð vinnuvéla. Nánari upplýsingar veitir Einar Friðrik Brynjarsson í einar@sandgerdi.is og í síma 420-7509, 899-7505
Starfsmaður í Íþróttamiðstöð Sandgerðis Starfsmaður óskast í fullt starf í Íþróttamiðstöð Sandgerðis frá 1. júlí – 31. október. Í starfinu felst m.a. klefavarsla í karlaklefum. Umsækjendur þurfa að hafa lokið námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Í starfi sundlaugarvarðar felst; Öryggisvarsla við sundlaug, klefavarsla, afgreiðsla, þrif og fl. Hæfniskröfur: Góð samskiptahæfni Reynsla af starfi með börnum og unglingum Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Tölvukunnátta Hreint sakavottorð Nánari upplýsingar veitir Jón Hjámarsson, forstöðumaður í síma 894-6535.
Bókasafn Sandgerðisbæjar óskar eftir fjölhæfum, ábyrgum og sveigjanlegum upplýsingafræðingi, bóka-
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Sandgerðisbæjar, www.sandgerdi.is og bæjarskrifstofunni, Miðnestorgi 3. Umsóknarfrestur vegna ofangreindra sumarstarfa er til og með föstudeginum 15. apríl 2016.
16
VÍKURFRÉTTIR
Píratar á Suðurnesjum Næsta laugardag halda Píratar í Reykjanesbæ aðalfund. Á fundinum verður starfssvæði félgasins stækkað svo að það nái yfir öll Suðurnesin í stað Reykjanesbæjar eingöngu eins og nú er. Þannig fá píratar Suðurnesjasvæðisins allir aðgang að félaginu og starfi Pírata á landsvísu. Á aðalfundinum verður einnig stofnað til umræðu um undirbúning fyrir Alþingiskosningar og hvernig staðið verður að þeim málum í Suðurkjördæmi. Píratar í öllu Suðurkjördæmi eru því boðnir velkomnir til skrafs og ráðagerða undir liðnum „önnur mál“ á aðalfundi, segir í tilkynningu frá Pírötum. Á Suðurnesjum hefur fylgi Pírata verið mælt af Gallup og hefur það hækkað úr 6,4% árið 2014 í 41,7% árið 2016. Það er því líklegt að Suðurnesjamenn séu vel með á nótunum hvað varðar stefnu Pírata um lýðræðislegar úrbætur á Íslandi, enda er stefnumál númer eitt að koma í gagnið nýrri stjórnarskrá, þeirri sem kosið var um árið 2012. Í því felast miklar lýðræðisúrbætur svo sem kosningar að frumkvæði almennings, aðskilnaður ráðherra og Alþingis, jafnt vægi atkvæða á öllu landinu og að arður af auðlindum skili sér á markaðsverði til samfélagsins. Píratar vinna sjálfir eftir lýðræðislegum ferlum, þannig að hvaða pírati sem er getur boðað félagsfund, komið umræðu af stað og sett mál í vefkosn-
ingu innan flokksins. Fái málstaður meirihluta atkvæða í vefkosningu verður málið eitt af stefnumálum Pírata. Þannig getur grasrótin haft áhrif á störf þingmanna og komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Á stefnuskrá Pírata eru nú þegar yfir 70 málefni af ýmsum toga, allt frá grunnstefnu sem skýrir almennt hvernig halda skuli á spöðunum í stjórnmálum, til nýsamþykktrar stefnu Pírata um rafbílavæðingu Íslands. Nokkur helstu stefnumálin felast í samfélagslegum úrbótum, svo sem að allar aflaheimildir verði leigðar út, öllum afla landað á markað og að handfæraveiðar verði undanþegnar kvóta. Einnig vilja Píratar lögleiða lágmarkslaunaviðmið Velferðarráðuneytisins, skoða möguleika á upptöku skilyrðislausra borgaralauna og bæta verulega úr heilbrigðisþjónustu, t.d. telja Píratar að fíkniefnamál eigi heima í heilbrigðiskerfinu fremur en dómsmálakerfinu. Í efnahags og atvinnumálum viljum við sjá aðskilnað fjárfestingabanka frá viðskiptabönkum og vilja greiða fyrir notkun annarra gjaldmiðla en krónunnar. Þá er ætlunin að endurskoða styrkjakerfi landbúnaðarins, að hluti útsvars fyritækja geti runnið beint til sveitarfélags og að einstaklingar geti fengið ónýttan persónuafslátt greiddan út. Stjórn Pírata í Reykjanesbæ
Vel heppnað íbúaþing um menntamál í Reykjanesbæ Þann 8. mars sl. var haldið íbúaþing um menntamál í Stapa en eins og lesendum er líklega kunnugt um þá er vinna við gerð nýrrar menntastefnu í fullum gangi. Það er mál manna að íbúaþingið hafið heppnast í alla staði mjög vel, mæting var mjög góð, líflegar umræður sköpuðust um ýmis málefni sem snerta nám og velferða barna og ungmenna í Reykjanesbæ. Á þinginu var stuðst við svokallað heimskaffi þar sem áhersla er lögð á þægilegt andrúmsloft og frelsi til þess að tjá skoðanir, einskonar kaffihúsastemmning. Hver þinggestur valdi sér tvö málefni til þess að ræða en á hverju borði voru gestgjafar sem stýrðu umræðum og héldu utan um niðurstöðurnar sem voru fjölbreyttar og munu nýtast vel í þeirri vinnu sem nú stendur yfir. Samantekt á niðurstöðum hafa þegar verið sendar til þátttakenda.
Formleg skólaganga og þátttaka í skipulögðu tómstunda- og íþróttastarfi
Nokkur málefni lágu til grundvallar en öll sneru þau á einn eða annan hátt að námi og velferð barna og ungmenna. Í umræðunni um formlega skólagöngu kom mjög skýrt fram að gott sjálfstraust, færni í samskiptum, gagnrýnin hugsun og sköpun eru eftirsóknarverðir eiginleikar hjá hverjum einstaklingi. Læsi í víðum skilningi var mikið rætt og almenn góð bókleg og verkleg menntun. Með þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi voru þátttakendur sammála um að það þyrfti að vera eitthvað í boði fyrir alla og að íþróttir og tómstundir eigi að hafa forvarnarhlutverki að gegna. Mikilvægt sé að hafa faglega og vel menntaða þjálfara, leiðbeinendur, kennara og leiðtoga í öllu tómstundastarfi og velferð barnsins þarf ávallt að hafa að leiðarljósi. Í þessu samhengi var rætt um að auka þyrfti stuðning við innra starf íþróttafélaga.
Gott skólasamfélag
Samvinna og samskipti allra sem hlut eiga að máli, jafnrétti til náms, sköpun, viðhorf og gildi eins og virðing, metnaður, áhugi, fagmennska, jákvæðni, traust, umhyggja, gleði og jákvæður agi eru mikilvæg til þess að byggja upp gott skólasamfélag að mati þinggesta.
HÚSNÆÐISÖRYGGI ERU MANNRÉTTINDI! Nýtur þú mannréttinda?
Dögun stjórnmálasamtök standa fyrir uppbyggingu á heilbrigðum húsnæðismarkaði. Fundur um húsnæðismál verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl nk. á Hafnargötu 62 efri hæð kl: 20.00.
fimmtudagur 7. apríl 2016
Frá íbúaþinginu í Stapa.
Með skólasamfélagi er átt við foreldra, nemendur, skóla, bæjaryfirvöld og aðra sem koma að barninu. Jafnrétti til náms, árangursríkt skólastarf með vel menntuðum og ánægðum starfsmönnum og meðvitaðir og ánægðir nemendur þurfa að vera til staðar í góðu skólasamfélagi. Í umræðunni um það hvaða leiðir hægt sé að fara til þess að efla samstarf milli heimila og skóla og hvetja foreldra til þátttöku komu fram margar hugmyndir að leiðum til að efla samstarfið en allar höfðu þær sama markmiðið að leiðarljósi, að samstarfið sé ávallt um hag barnsins. Námskeið, málstofur, fræðsluerindi, foreldrasáttmálar var meðal þess sem kom fram til þess að efla foreldra í hlutverki sínu. Einnig var rætt um að sérstaklega þyrfti að ná til foreldra af erlendum uppruna.
Skuldbinding til náms og flæði á milli skólastiga
Þátttakendur ræddu talsvert um mikilvægi viðhorfsbreytingar til menntunar í samfélaginu og að hún þurfi að vera víðtæk. Skuldbindingu til náms sé nauðsynlegt að innleiða með markmiðasetningu og að foreldrar séu meðvitaðir um nám barna sinna upp allan grunnskólann og í framhaldsskóla, foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum til 18 ára aldurs. Bregðast þarf við svokölluðum brottfallsnemendum og fylgja þeim eftir. Námsráðgjöf þarf að efla í grunn- og framhaldsskólum til þess að minnka líkur á brottfalli og styrkja alla nemendur. Efla þarf
þrautseigju í námi og úthald. Gera þarf verk- og iðngreinum hærra undir höfði, en það viðhorf virðist ríkjandi að allflestir eigi að fara í bóknám. Margar hugmyndir komu fram um samstarf og flæði á milli leik- og grunnskóla annars vegar og grunnog framhaldsskóla hins vegar. Samstarfið þarf að vera í báðar áttir, einkennast af virðingu og með hagsmuni barnsins/ungmennisins að leiðarljósi. Samræma þarf samstarfsáætlun milli allra skóla í Reykjanesbæ. Stjórnendur spila lykilhlutverk í slíku samstarfi og nauðsynlegt er að gefa tíma til samstarfsins. Það þarf að vera skýrt hver ber ábyrgð á samstarfinu og allir hagsmunaaðilar séu meðvitaðir um tilgang samstarfsins.
Horft fram á veginn
Eins og fram hefur komið þá er vinna við gerð nýrrar menntastefnu í fullum gangi og er áætlað að þeirri vinnu ljúki nú í vor. Í raun má segja að slíkri vinnu ljúki aldrei heldur er stefna sem þessi í sífelldri endurskoðun. Við þökkum þeim fjölmörgu sem sáu sér fært að mæta á íbúaþingið fyrir þátttökuna og ríkulegt framlag til mótun nýrrar menntastefnu fyrir Reykjanesbæ. Þá færum við einnig Skólamat kærar þakkir fyrir veitingarnar á þinginu. Fyrir hönd stýrihóps um nýja menntastefnu fyrir Reykjanesbæ. Anna Hulda Einarsdóttir og Anna Sigríður Jóhannesdóttir verkefnastjórar.
Stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði Dögun stjórnmálasamtök halda fund í Reykjanesbæ 7. apríl nk. um húsnæðisöryggi fólks í Reykjanesbæ og í nágrannasveitarfélögum. Húsnæðisöryggi eru mannréttindi og húsaleigumarkaður skal vera uppbyggður að norrænni, þýskri eða austurrískri fyrirmynd. Það þarf að auka valkosti á húsnæðismarkaði og tryggja langtíma leigurétt. Það þarf að okkar mati að skapa rými fyrir óhagnaðardrifin húsnæðissamvinnufélög. Dögun er alfarið á móti því að fjármálafyrirtækin stofni og reki fasteignafélög inni á leigumarkaði sem arðsemisfjárfestar. Í Reykjanesbæ er langur biðlisti fjölskyldna eftir félagslegu leiguhúsnæði og vita vonlaust að fá slíkt húsnæði nema ef eitthvað losnar því ekki eru
keyptar inn íbúðir til að mæta þörfinni. Íbúar í nærliggjandi sveitarfélögum er hafa misst húsnæði sitt hafa þurft að flytja hreppaflutningum þó að vilji hafi verið til þess að búa áfram í sínum bæ og með tilheyrandi óþægindum fyrir t.d. börnin sem hafa þurft að yfirgefa vinina einfaldlega vegna þess að húsnæði var ekki til staðar á því verði sem fólk réði við.
Það fólk sem eftir hrun missti sitt og lenti á vanskilaskrá fær enga fyrirgreiðslu til þess að greiða allt að 3 mánaða tryggingu á húsnæði og eigendur þ.á.m. Íbúðalánasjóður sem er eign ríkisins okkar, leigir ekki fólki sem hefur lent á vanskilaskrá en það fólk þarf líka að búa einhvers staðar. Þessu fólki þurfum við að mæta og aðstoða við að komast í öruggt skjól.
Við síðustu kosningar taldi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar að það ætti ekki að verða neitt mál að einhenda sér í verkefnið, að vera með milligöngu um að leigja félagslegt húsnæði af íbúðarlánasjóði og áframleigja það skjólstæðingum sínum sem eru á biðlista, en ekki hefur verið um efndir í þeim efnum, enn er langur biðlisti.
Við viljum endilega fá þig og þína á fund til þess að skiptast á skoðunum, heyra fleiri sjónarmið og fá tillögur frá ykkur um hvaða leiðir séu færar. Fh. Dögunar Ragnhildur L. Guðmundsdóttir
VIKULEGUR FRÉTTAMAGASÍNÞÁTTUR FRÁ SUÐURNESJUM Í SJÓNVARPI Á ÍNN FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 21:30
SÖGU ÞYRLUSVEITAR VARNARLIÐSINS BJARGAÐ
Sjónvarp Víkurfrétta
- eitthvað fyrir alla!
fimmtudagur 7. apríl 2016
17
VÍKURFRÉTTIR
Starfsskóli Sandgerðisbæjar þekking og þjálfun - fyrir þig Við hjá Sandgerðisbæ ætlum að setja tíma, fjármagn og þekkingu í að endurbyggja starfssemi og ímynd hins gamla og góða Vinnuskóla. Við ætlum að byrja á því að breyta heitinu á skólanum og kalla hann starfsskóla þar sem við leggjum áherslur á að undirbúa okkar starfsmenn/nemendur sérstaklega til þess að takast á við vinnumarkað framtíðar. Starfsskólinn hefur stjórnanda og síðan ráðum við verkefnisstjóra í stað flokkstjóra. Þetta ætlum við að gera í samstarfi við ungt fólk í okkar umhverfi. Til þess að vinna að þessu leitum að frábæru, skapandi og skipulögðu fólki sem er jákvætt og vill taka þátt í spennandi verkefni. Nú þegar er hafin þróunarvinna við að endurskipuleggja starfsskólann og gera hann metnaðarfullan og eftirsóknarverðan fyrir ungmenni og stjórnendur. Starfsskólinn mun standa fyrir þekkingu, þjálfun - fyrir þig. Það þýðir að allt sem kennt og þjálfað á að nýtast okkar fólki vel inn í framtíðina. Stjórnandi og verkefnisstjórar fá þjálfun og reynslu í stjórnun, skipulagi og samskiptum við ungt fólk. Þeim er einnig
leiðbeint hvernig taka skal á málum og eins hvernig hægt er að auka sjálfstæði og byggja upp jákvæða sjálfsmynd ungmenna. Verkefnisstjórar hafa aðgang að þjálfun allt sumartímabilið og þurfa að skila umsögum um sína starfsmenn. Nemendur starfsskólans verða núna starfsmenn skólans sem selja sínar vinnustundir. Því fylgir bæði ábyrgð og væntingar. Þess vegna fá þeir þjálfun í því að skoða tilgang verkefna, þeim verður kennd almenn siðfræði á vinnumarkaði, mætingar, agi og virðing, farið í grunnatriði vinnuréttar og samstarf. Þau ræða, skoða og skilgreina ímynd bæjarfélagsins og leggja sitt af mörkum til þess að byggja upp og hafa áhrif á það samfélag sem við getum öll verið stolt af. Þau eiga kost á því að velja sér sum verkefni eftir áhugasviði og eins gefst þeim tækifæri á því að skoða og kynnast annarri atvinnustarfssemi hér á svæðinu. Verkefnisstjórar munu síðan leggja mikla áhersla á félagsþroska og samskipti með því að kynna það sem efst er á baugi hverju sinni í samráði við Hitt Húsið og aðra þá sem eru að gera eitthvað áhugavert með ungu fólki.
Starfsskólinn mun síðan sjálfur sjá um að kynna verkefni sumarsins á lokahátið skólans þar sem verkefni og annað starf verður kynnt að sérstökum hætti starfsmanna skólans. Með þessum ásamt fleiru viljum við búa til virkan skóla þar sem ungmenni og stjórnendur fá fjölbreytta og skemmtilega þjálfun og tækifæri til að taka þátt og fá kynningu á áhugaverðum verkefnum innan okkar samfélags. Vinnuskólahugmyndin er einstök og það er okkur gríðarlegar mikilvægt að viðhalda þessu verkefni á eins jákvæðan og hvetjandi hátt og kostur er. Við viljum nýta sem best þetta góða tækifæri sem við höfum hér á Íslandi til að undirbúa ungt fólk fyrir vinnumarkað framtíðarinnar og gefa þeim tækifæri að vinna í uppbyggilegum sem og nauðsynlegum verkefnum um leið og þau taka sín fyrstu skref á vinnumarkaðinn. f.h. Sandgerðisbæjar Rut Sigurðardóttir, Frístunda- og forvarnafulltrúi. Einar Friðrik Brynjarsson, Umhverfis- og tæknifulltrúi.
Eru samgöngumálin svona einföld? Víkurfréttir birtu stutta frásögn af samtali sem ég átti við blaðamann blaðsins. Þar ræddum við um samgöngumál á Suðurnesjum og kom ég inn á málefni sem tengist uppbyggingunni í kringum Keflavíkurflugvöll og samstöðu okkar Suðurnesjamanna í þessum verkefnum. Í leiðara blaðsins er svo sú ályktun dregin að það sé einfalt að klára tvöföldun Reykjanesbrautar á næstu tveimur og hálfu ári þar sem Suðurnesin eigi sjö Vilhjálmur þingmenn, einn ráðherra Árnason og einn fulltrúa í umalþingishverfis- og samgöngumaður nefnd. Ef svo væri, þá væri nú lífið hjá okkur á Suðurnesjum auðvelt en heldur verra hjá íbúum annarra landssvæða. Leiðarahöfundur kom þó inn á það í greininni að það væri önnur leið fær en kjördæmapotið til að koma framkvæmdinni á dagskrá. Það er leiðin að forgangsraða framkvæmdum faglega byggt á gögnum um öryggi, hagkvæmni og aðstæðum hverju sinni. Þá leið hugnast mér betur og á þeim grunni hef ég verið að vinna að málinu frá því að ég tók sæti á Alþingi. Því ætla ég að skýra í stuttu máli hvernig samgönguáætlun verður til og hvernig hún er uppbyggð. Samgönguáætlun er skipt í tvo hluta, annars vegar fjögurra ára framkvæmdaáætlun og 12 ára stefnumótunaráætlun sem er svo skipt
í þrjú framkvæmdaráætlunar tímabil. Samkvæmt mínum heimildum er Reykjanesbrautin inni í 12 ára áætluninni og gatnamótum við Krísuvíkurveg og Reykjanesbrautar var flýtt um eitt ár í fjögurra ára áætluninni eftir mikinn þrýsting frá hagsmunaaðilum á því svæði og nefndaráliti umhverfisog samgöngunefndar á s.l. ári. Innanríkisráðherra skipar svo samgönguráð sem undirbýr drög að þessum tveimur skjölum. Formaður samgönguráðs er skipaður af ráðherra og sitja með honum í ráðinu vegamálastjóri, forstjóri Samgöngustofu og forstjóri ISAVIA. Samgönguráð fundar svo með landshlutasamtökum sveitarfélagana og safnar gögnum frá þeim stofnunum sem eiga sæti í ráðinu. Tillaga samgönguráðs fer svo til ráðuneytisins sem getur gert breytingar á henni og tillögurnar svo loks lagðar fram á Alþingi í formi samgönguáætlunar. Þegar ráðherrann hefur mælt fyrir tillögunum á Alþingi koma þær loks til umhverfis- og samgöngunefndar til umfjöllunar og þar geta allir landsmenn komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Eins og sjá má á þessu ferli þá er búið að vinna mikla vinnu áður en tillögurnar koma til þingsins. Í þessari vinnu er upplýsingum safnað saman og verkefnum forgangsraðað eftir því. Það er svo okkar á Alþingi að fara yfir hvort forgangsröðunin sé fagleg, öryggi í samgöngum sé
tryggt og að þjóðfélagslegar hagkvæmar framkvæmdir séu framar öðrum. Það er þess vegna sem ég segi að við öll, þingmenn, sveitarstjórnir og íbúar svæðisins eigum að koma fram sem einn hópur með upplýsingar til að rökstyðja okkar óskir. Við erum best til þess fallin því við þekkjum okkar svæði best, við þekkjum okkar þarfir best og við erum best í því að forgangsraða okkar áherslum. Ég er vel tilbúinn til þess að aðstoða sveitarfélögin við að koma sínum málum á framfæri á frumstigum samgönguáætlunar. Þetta þurfum við að gera hvað varðar Reykjanesbrautina og þetta þurfum við að gera vegna þeirra uppbyggingar sem á sér stað núna og er framundan á Keflavíkurflugvelli og nærsvæði hans. Ríkissjóður er að fá af flugvellinum og flugvallarsvæðinu margvíslegar tekjur, t.d. með sölu fasteigna á Ásbrúarsvæðinu og því eðlilegt að þær fari til að mæta aukinni þörf á innviðauppbyggingu vegna uppbyggingar og þróunnar ríkisfyrirtækja. Hér eru um ein stærstu hagsmunamál Suðurnesja að ræða og því vil ég taka samtal um þau við ykkur á fundi á næstunni. Og vonandi sjáumst við sem flest. Málin eru ekki einföld og við Alþingismenn tökum ekki einir ákvörðun um einstaka verkefni en við eigum að þekkja þær leiðir sem koma málum áfram í samvinnu við ykkur kæru félagar.
Hverjum er treystandi fyrir fjöregginu? Menn tuða í sífellu um að þeir sem stjórna þurfi að hafa nóg á milli handanna, því þá sé minni hætta á að borið sé á þá fé. Það er fásinna. Enginn er svo ríkur að hann vilji ekki meira. Þetta snýst um græðgi og græðgin er í eðli sínu takmarkalaus. Þar eru engin efri mörk. Það er spurning um heiðarleika hvort við treystum fólki fyrir okkar málum - okkar framtíð. Um samkennd með öðru fólki. Blásnautt fólk er ekki síður heiðarlegt en ríkt fólk. Ég held að það sé auðveldara að múta ríkum manni en snauðum. Sá snauði hefur vanist því að fá lítið og komast af með lítið (og hefur líklega ekki varið kröftunum í auðsöfnun) en líf þess ríka hefur trúlega snúist meira um auðæfi - að afla þeirra og halda utanum. Og til að réttlæta að þeir eigi skilið meira en aðrir staðsetja þeir sig fyrir utan og ofan fjöldann. Sammála? Ég er hér að færa rök fyrir þeirri sannfæringu minni að auðmenn eigi EKKI
Myndina tók höfundur á Austurvelli 4. apríl 2016.
að koma nálægt hvorki Alþingi né ráðherrastólum. Auðmannaklíkur eiga EKKI að koma nálægt Alþingi - og alls ekki að verma ráðherrastóla. Það er málið! Úlfar eiga ekki að gæta sauðahjarðar (þó í sauðagæru séu). Þeir sem hugsa mest um að troða út sína eigin vasa eiga ekki sjá um okkar sameiginlegu mál.
Félagshyggja er betri fyrir samfélagið en auðhyggja. Nú þurfa fleiri að átta sig á þeirri augljósu staðreynd. Með félagshyggju er hægt að hemja græðgina, setja sanngjarnar leikreglur og fylgja þeim eftir. Við Vinstri græn erum öflug í því. Við erum hreyfing félagshyggjufólks sem helgar sig baráttu fyrir betra samfélagi – sem er betra fyrir okkur öll (líka betra fyrir auðmennina, því auðurinn færir þeim takmarkaða hamingju). Hamingjan sprettur upp þar sem fólk kemur fram hvert við annað sem jafninga, sýnir örlæti og virðingu og býr við öryggi án vopnaskaks. Okkur vantar fleira félagshyggjufólk til að breyta samfélaginu. Til að skapa betri framtíð fyrir okkur öll. Nú er tækifæri til að láta gott af sér leiða! Koma svo!
SÆ
KT
U
UM
ÞJÓNUSTUFULLTRÚI
NÚ
NA
Í BÍLALEIGU Í KEFLAVÍK
Thrifty Car Rental, bílaleiga Brimborgar, leitar að röskum og jákvæðum starfsmanni í sumarstarf þjónustufulltrúa á starfsstöðvar í Keflavík. Skemmtilegt og krefjandi starf í líflegu umhverfi. Stutt lýsing á starfi: • Afhending bíla til erlendra sem innlendra viðskiptavina og móttaka við leiguskil • Upplýsingagjöf og sala þjónustu • Skráning bókana • Skutl viðskiptavina til og frá starfstöð Hæfniskröfur: • Stúdentspróf og/eða reynsla af sambærilegu starfi • Hæfni í tölvunotkun • Gilt bílpróf og vera jafnvíg(ur) á beinskiptan og sjálfskiptan bíl • Framúrskarandi þjónustulund • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta Unnið er á vöktum 06:00-18:00 og frá 18:00-06:00 (5/4). Nánari upplýsingar um starfið má finna á www.brimborg.is (laus störf). Umsóknarfrestur er til 14. apríl 2016
Þorvaldur Örn Árnason, Vinstrigrænn í Vogum.
Þjónustufulltrúi_Víkurfréttir_99x200_20160119.indd 1
31.3.2016 11:51:03
18
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 7. apríl 2016
Okkar ástkæra,
Guðrún Emilsdóttir (Rúna), lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 4. apríl. Jarðaförin verður auglýst síðar. Fjölskylda hinnar látnu.
Svona var ástandið á Norðurkoti þegar minjafélagið tók við húsinu fyrir áratug síðan.
Elínrós Jónsdóttir
Norðurkot eins og útlit þess er í dag.
Njarðarvöllum 2, Njarðvík, Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samhug og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu á Nesvöllum fyrir einstaklega góða umönnun og umhyggju.
Minjar og saga varðveitt
Þórður Ingimarsson, Margrét Skarphéðinsdóttir, Jónatan Ingimarsson, Erla Vigdís Óskarsdóttir, Guðmundur Jens Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.
komandi kynslóðum til ánægju og lærdóms ●●Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar gerir upp elsta uppistandandi skólahús sveitarfélagsins
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ingi Eggertsson, lést föstudaginn 18. mars 2016. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu Nesvöllum fyrir einstaklega góða umönnun og umhyggju. Ágústa Halla Jónasdóttir, Hjálmtýr Ingason, Sigurður E. Ingason, Ásdís Ingadóttir, Þórarinn I. Ingason, Sigríður Ingadóttir, Ragnar Ingason, Jónas Ingason, barnabörn og barnabarnabörn.
Þuríður G. Aradóttir, Bjarnheiður Þ. Þórðardóttir, Sveinbjörn Halldórsson, Jóhanna Ó. Jónasdóttir, Ólafur J. Ormsson, Jessica S. Suber, Hjördís Ó. Hjartardóttir,
Norðurkot var byggt árið 1903 og hefur mikið menningarsögulegt gildi í Sveitarfélaginu Vogum en um er að ræða elsta uppistandandi skólahús þess. Skóli hafði verið rekinn í Suðurkoti á Vatnsleysuströnd frá 1872 en þar sem dreifbýlt var á ströndinni voru starfrækt nokkurs konar skólaútibú til að auðvelda börnum skólagönguna. Eitt þessara útibúa var Norðurkotsskóli. Húsið var orðið illa farið og að hruni komið þegar það var gefið til Minjaog sögufélags Vatnsleysustrandar. Sá félagsskapur var stofnaður árið 2005 með það að markmiði að stuðla að varðveislu minja í sveitarfélaginu
Vogum. Mannvirkja sem hafa varðveislugildi jafnt sem annarra minja. Engin formleg félagasamtök höfðu fyrir stofnun félagsins verið starfandi í sveitarfélaginu og haft tilgreind markmið að leiðarljósi en varðveislan hafði verið í höndum einstaklinga í Vogum. Norðurkot var flutt af grunni sínum og á nýjan stað við Kálfatjarnarkirkju þar sem er framtíðar safnasvæði Sveitarfélagsins Voga. Þar hefur verið unnið að endurbyggingu Norðurkots í sem upprunalegastri mynd. Lokið hefur verið við endurbætur utanhúss en endurbætur á innviðum hússins standa yfir.
Helga Ragnarsdóttir, gjaldkeri minjafélagsins.
Skreytum hús
GAURAGRÁR Skreytum hús
DÖMUGRÁR
FERMINGARLITIRNIR 2016
40% AFSLÁTTUR
*gildir til 15. apríl
Skreytum hús GAURAGRÁR og DÖMUGRÁR eru fermingarlitirnir í ár og eru á sértilboði. Þeir eru einstaklega fallegir mjúkir grátónalitir úr litakorti Skreytum hús og sérblandaðir hjá Slippfélaginu. Tilvaldir á veggina hjá fermingarbarninu, stofuna, svefnherbergið eða önnur rými. Komdu og fáðu fríar litaprufur af fermingarlitunum.
Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Borgartúni 22 og Dugguvogi 4, Reykjavík, S: 588 8000 • Dalshrauni 11, Hafnarfirði, S: 588 8000 • Gleráreyrum 2, Akureyri, S: 461 2760 • slippfelagid.is
fimmtudagur 7. apríl 2016 Helga Ragnarsdóttir, gjaldkeri minjafélagsins, sagði í samtali við Víkurfréttir að hugmyndirnar með Norðurkot væru að gera húsið að skólasafni og gera merkilegri skólasögu Voga myndarleg skil en sú saga er 144 ára gömul. Á safnahelgi á Suðurnesjum, sem haldin var á dögunum, voru ýmsir munir úr skólasögunni til sýnis í Norðurkoti. Fjölmargir lögðu leið sína í húsið til að skoða það og þá muni sem það hefur að geyma. Minjafélagið heldur ekki eingöngu utan um Norðurkot. Ofan við húsið stendur hlaðan Skjaldbreið sem reist var um 1850 og stendur á hlaðinu á Kálfatjörn. Skjaldbreið hefur umtalsvert menningarsögulegt gildi um aðstöðu og lifnaðarhætti bænda á 19. öld auk þess að vera ómissandi hluti af umhverfinu við kirkjuna og mikilvægur þáttur í sögu staðarins. Samkvæmt aldursákvæði Þjóðminjavarðar er hlaðan friðuð og vinnur Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar að endurbótum á henni. Fyrir nokkrum árum varð mikið tjón á hlöðunni í óveðri þegar þak hennar fauk af í heilu lagi þannig að nú standa bara eftir hlaðnir veggir hlöðunnar. Til stendur að endurbyggja þakið á næstu misserum en unnið er að fjármögnun verksins. Störf minjafélagsins snúast um að varðveita minjar og sögu sveitarfélagsins, komandi kynslóðum til ánægju og lærdóms. Frá stofnun hefur stjórn félagsins unnið hörðum höndum að því að bjarga ýmsum gömlum munum frá glötun ásamt því að miðla til almennings sögulegum staðreyndum og halda á lofti gildi starfs af þessu tagi. Einn af merkilegum munum sem félagið varðveitir í dag er bátur sem Ólafur Erlendsson frá Kálfatjörn og fjölskylda gáfu minjafélaginu. Báturinn er súðbyrðingur með engeysku lagi. Hann var smíðaður um 1930 1940 og er einn fjölmargra báta sem Ingimundur Guðmundsson, bóndi á Litlabæ og nágranni Kálfatjarnarfólksins, smíðaði. Báturinn líkist mjög þeim opnu mótorbátum sem einkenndu bátaflotann á Íslandi frá 1925 til 1935. Í honum er vél áþekk þeim sem knúðu þá báta, og hefur verið í frá upphafi. Báturinn hefur nú að hluta til verið gerður upp ásamt vél. Þá hefur félagið unnið að ýmsum verkefnum frá því starfsemi þess hófst. Má þar meðal annars nefna grjóthleðslunámskeið í samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, þátttöku í safnahelgi á Suðurnesjum, verkefnið Sagan vaknar á vefnum sem og söfnun á gömlum ljósmyndum úr sveitarfélaginu, sem Sesselja Guðmundsdóttir hafði veg og vanda að. Þá eru framtíðarverkefnin ótalmörg, að sögn Helgu Ragnarsdóttur, gjaldkera félagsins.
19
VÍKURFRÉTTIR
Hlaðan Skjaldbreið áður en óveður tók þakið af henni.
Skólasögu Voga er gerð skil í Norðurkoti.
ÖNNUR HÆÐ
A1 A 11
A 12
A 13
A 14
A 15
A 16
A2
BROT TFAR ARHLIÐ Á K E F L AV Í K U R FLUGVELLI FÁ NÝ NÚMER
C 22 C 31 C 33
C 24 C 26 C 28
C 35
C 36 C 29 C 27 C 25
C 32
C 21
C 34
C 23
Skilta- og leiðbeiningarkerfi Keflavíkurflugvallar hefur verið endurskoðað með það að markmiði að auðvelda farþegum að komast leiðar sinnar. Með breytingunni eru hlið aðgreind með lit og bókstaf eftir því í hvaða hluta flugstöðvarinnar þau eru og hvort þau eru fyrir flug til áfangastaða innan eða utan Schengen svæðisins. Leiðbeiningakerfið er hugsað til framtíðar og mun falla vel að framtíðaruppbyggingu sam kvæmt þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar.
F Y R S TA HÆÐ
Við erum þess fullviss að breytingin eigi eftir að gera ferðalagið auðveldara og þægilegra. — Góða ferð!
D 22
D 15 D 31 D 33
D 24 D 26 D 28
D 36
D D 29 D 27 D 25
#WHENINKEF
D 21 D 23
D 35
D 32 D 34
W W W. K E F A I R P O R T. I S
20
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 7. apríl 2016
ATVINNA Eitt töfrateppi, takk! Sumarafleysingar
●●Töfrandi og frábær sýning í Frumleikhúsinu
Starfsmaður óskast í útkeyrslu og afgreiðslu á Fitjabakka 2 - 4. Umsóknareyðublöð eru á staðnum einnig er hægt að sækja um á steinar@olis. Æskilegt að umsækjandi sé ekki yngri en 20 ára.
SOGÆÐANUDD María Björk Ólafsdóttir og Marjolein Roodbergen verða með námskeið í sogæðanuddi hjá Krabbameinsfélgi Suðrnesja 12. og 19. apríl nk. kl. 16:00 báða daganna. Námskeiðið verður í tvo og hálfan tíma í hvert skipti. Verð er kr. 5.000,Námskeiðið er öllum opið. Vinsamlag skráið ykkur í síma 421 6363 eða með tölvupósti sudurnes@krabb.is
AÐALFUNDUR KAUPFÉLAGS SUÐURNESJA
Aðalfundur KSK verður haldinn í dag fimmtudaginn 7. apríl kl. 18:00 í Krossmóa 4, 5 hæð. Aðalfundarfulltrúar og varamenn eru hvattir til að mæta. Dagskrá samkvæmt félagslögum Ávarp flytur Þuríður Aradóttir Markaðsstofu Reykjaness. Ferðaþjónustan-okkar ábyrgð. Boðið er til kvöldverðar að fundi loknum.
Þuríður Aradóttir, Verkefnastjóri Markaðsstofu Reykjaness
Ómar Valdimarsson, Framkvæmdastjóri Samkaupa
Skúli Skúlason, Formaður KSK
Föstudaginn 1. apríl frumsýndi Leikfélag Keflavíkur í samstarfi við Vox Arena, Leikfélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja söngleikinn „Eitt töfrateppi, takk!“. Höfundar og leikstjórar verksins eru þeir Jón Bjarni Ísaksson og Arnór Sindri Sölvason sem hafa verið viðloðandi leiklist til margra ára. Þarna er á ferðinni eitt skemmtilegasta verk sem sett hefur verið á svið hér í bæjarfélaginu og glumdi hlátur leikhúsgesta frá upphafi sýningar til enda. Verkið sem styðst við söguna af Alla og töfralampanum hans er frábærlega skrifað verk fyrir alla fjölskylduna. Höfundarnir skjóta inn ótrúlega skemmtilegum, nútíma „fullorðins“ bröndurum sem fólk hreinlega tók bakföll af hlátri yfir. Umgjörð verksins er snilldarlega upp sett en leikmyndin er hönnuð af Davíð Erni Óskarssyni sem einnig sá um smíði hennar ásamt Gunnari Valdimarssyni, kennara í FS og hans nemendum. Hlutverkin í þessari uppsetningu eru ótrúlega vel valin og hver leikari að smellpassa í sitt hlutverk. Leikarar koma allir úr röðum FS og skila sínu vel. Söngvarar eru að skila sínum söng óaðfinnanlega og nefni ég þá sérstaklega þær Brynju Ýri og Ásdísi Rán sem eiga hrós skilið fyrir sína frammistöðu. Götudrengurinn Aladdín er leikinn af Jóhönnu Jeanne og skilar hún hlutverki sínu með miklum ágætum og syngur vel. Jasmín prinsessa er leikin af Rítu Kristínu sem kemst mjög vel frá sínu. Sóldáninn föður Jasmínar leikur Magnþór Breki frábærlega og gerir mikið úr hlutverkinu. Að öðrum leikurum ólöstuðum verð ég einnig að nefna þá Guðstein Fannar sem leikur sögumanninn og Guðlaug Ómar sem leikur Jafar. Báðir leika þeir og syngja sín hlutverk af mikilli sannfæringu og krafti. Stjarna og senuþjófur sýningarinnar er þó án efa Sigurður Smári í gerfi Andans en hann marg stal senunni með hnyttnum línum og svipbrigðum og tókst að gera hlutverk sitt ákaflega sjarmerandi og skemmtilegt. Töfrateppið fylgdi Andanum alla sýninguna og var einstaklega vel hannað og leikið af Lovísu Ýri. Eins og áður sagði er sýningin í alla staði ákaflega lifandi, litrík og skemmtileg og þar skemmir ekki að búningarnir eru einstaklega vel gerðir og vandaðir. Dansarar og danshöfundar eiga einnig hrós skilið fyrir þeirra vinnu en dansinn setur skemmtilegan svip á heildarmyndina. Það er full ástæða til að óska öllum þeim sem að þessari sýningu koma til hamningju með frábært verk og um leið hvetja alla áhugasama leikhúsunnendur til þess að skella sér á „Eitt töfrareppi, takk“. Ég átti stórskemmtilegt kvöld ásamt minni fjölskyldu og vorum við öll sammála um að hér væri á ferðinni tímamótaverk sem enginn má láta fram hjá sér fara. Takk fyrir mig og mína. Ánægður leikhúsgestur.
fimmtudagur 7. apríl 2016
Íbúakosningin kostaði þrjár milljónir ■■Kostnaður Reykjanesbæjar vegna rafrænnar íbúakosningar um breytingu á deiliskipulagi í Helguvík var 3.033.928 krónur. Auk þess greiddi Þjóðskrá kostnað við kosninguna. Íbúakosningin fór fram 24. nóvember til 4. desember síðastliðinn og tóku aðeins 8,71 prósent kosningabærra íbúa í Reykjanesbæ þátt í henni. Niðurstaðan varð sú að 50,4 prósent voru hlynnt breytingu á deiliskipulagi í Helguvík en 48,3 prósent á móti. Fyrr á síðasta ári höfðu um 2800 íbúar Reykjanesbæjar skrifað undir yfirlýsingu til Reykjanesbæjar þess efnis að efnt yrði til íbúakosningar um breytingar á deiliskipulagi í Helguvík vegna byggingar á kísilveri Thorsil ehf. við Berghólabraut.
Mótmæltu byggingarreit suður af Víðihlíð ■■Þrjár athugasemdir bárust frá almenningi við deiliskipulag við Víðihlíð og nágrenni í Grindavík. Ekki höfðu borist umsagnir frá Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirliti til skipulagsnefndar Grindavíkur fyrir síðasta fund hennar.
Í athugasemdum frá almenningi er mótmælt byggingarreit suður af Víðihlíð. Skipulagsnefnd samþykkti á fundi sínum á dögunum innkomnar athugasemdir að hluta og verður umræddur byggingareitur tekin út af tillögunni. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn Grindavíkur að tillagan verði samþykkt og sviðsstjóra verði falið það til fullnaðarafgreiðslu geri Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirlit ekki athugasemdir.
21
VÍKURFRÉTTIR
SMÁAUGLÝSINGAR Óskast
SUNNUDAGURINN 10. APRÍL KL. 11:00 Fermingarguðsþjónusta. Myllubakkaskólabörn verða fermd. Prestar: Erla Guðmundsdóttir og Eva Björk Valdimarsdóttir. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. MIÐVIKUDAGURINN 13. APRÍL KL. 12:00 Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar. Súpa og brauð 500. kr. Umsjón Arnór organisti og prestarnir
Einstæð móðir með 2 börn óskar eftir 3-4 herbergja íbúð til leigu í Keflavík eða Njarðvík. Reyklaus, engin gæludýr og öruggar greiðslur. Upplýsingar í síma 865 1446. 2ja til 3ja herbergja íbúð óskast til leigu. Er reglusöm. Upplýsingar í síma 861 8311.
Til leigu
Nýstandsett 62 fm íbúð á jarðæð auk geymslu og þvottaherbergi. Upplýsingar í s. 891 6768.
Þjónusta
Aðalsafnarfundur Ytri-Njarðvíkursóknar verður haldinn 10. apríl að lokinni fjölskylduguðsþjónustu kl.11:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefnd.
www.vf.is
Tökum að okkur gerð skattframtala, ódýr og góð þjónusta. Bókhald.net, bókhaldsþjónusta og ráðgjöf. Víkurbraut 25, Grindavík. Sími 583-0040. www.bokhald.net
Tapað fundið
Týnd hvít kisa Snjóhvít týndist 1. apríl. Upplísingar í síma 8957073 Inga.
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
Auglýsingasímin er 421 0001
SOHO CATERING HEFUR OPNAÐ AFTUR EFTIR SMÁ HLÉ... Í APRÍL VERÐUR OPIÐ FRÁ KL. 11:00 - 14:00. MATSEÐILINN ER Á WWW.SOHO.IS TILVALIÐ FYRIR VINNUSTAÐI AÐ PANTA OG SÆKJA Soho Catering – Veisluþjónusta // Hrannargata 6 ( áður Raggi bakari) // Sími: 421 7646 // Gsm 692 0200 // www.soho.is
22
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 7. apríl 2016
ÍÞRÓTTIR
Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is
ÚTBOÐ
SVEITARFÉLAGIÐ VOGAR ÓSKAR EFTIR TILBOÐUM Í VERKIÐ „IÐNDALUR – ENDURGERÐ GÖTU LAGNIR - YFIRBORÐSFRÁGANGUR“ Verkið felst í endurgerð neðri hluta götunnar frá gatnamótum Stapavegar, lagningu nýrrar vatnslagnar og yfirborðsfrágangs ásamt yfirborðsfrágangi efri hluta götunnar að gatnamótum Vogabrautar. Um er að ræða uppgröft ónothæfs efnis, afréttingu götuyfirborðs ásamt styrkingu burðarlags, jöfnunarlag, malbikun, lagningu nýrrar vatnslagnar, endurnýjun fráveitu- og vatnslagna, niðurfalla og brunna eftir þörfum skv. nánara mati verkkaupa við framkvæmd verksins. Efri hluta götunnar skal vinna í rétta hæð og ganga frá yfirborði með uppfræstu malbiki sem verkkaupi útvegar. Helstu magntölur eru u.þ.b: Uppgröftur 1500 m³ Fyllingar 2200 m³ Malbik 2200 m² Fráveitulagnir 295 m Vatnslagnir 360 m
Útboðsgögn verða afhent frá og með föstudeginum 8. apríl 2016.
„Ég á helling inni“
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en miðvikudaginn 20. apríl 2016, kl. 11:00 og verð þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
●●Ingunn Embla og Grindvíkingar nálgast lokaúrslitin ●●Grindvíkingar geta klárað Hauka á heimavelli
Sveitarfélagið Vogar
Ingunn Embla Kristínardóttir skaust fram á sjónarsviðið aðeins 17 ára gömul með Keflvíkingum í Domino’s deildinni í körfubolta. Hún varð ófrísk sama ár. Hún viðurkennir að það hafi verið dálítið sjokk en alls staðar mætti hún jákvæðum straumum og hjálpsemi á meðgöngu. Hún var ekkert á því að slá slöku við og æfði körfubolta allt fram að fæðingu. „Ég var á æfingu bara tveimur dögum áður en ég átti. Ég var svo mætt á völlinn aftur tveimur vikum eftir að ég átti,“ segir þessi öflugi leikmaður. Ingunn sem er nú tvítug, leikur nú með Grindavík, segir að það hafi tekið dágóðan tíma að ná upp fyrri getu þar sem meiðsli hafi sett strik í reikninginn fljótlega eftir fæðingu, þar sem hún þurfti í aðgerð á hné. „Ég get ekki sagt að ég sé í mínu besta formi og á helling inni.“ Fyrr á árinu var Ingunn valin í A-landsliðið en hún er hæstánægð með að hafa fengið það tækifæri. „Það er allt upp á við núna þannig að ég er bara mjög bjartsýn á framhaldið.“
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 30. september 2016. Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið byggingafulltrui@vogar.is eða hringja í síma 440 6200 og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti.
AÐALFUNDUR Aðalfundur Krabbameinsfélags Suðurnesja Fimmtudaginn 14. apríl 2016 kl. 19:00 á Park Inn hóteli Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár. 2. Endurskoðaðir reikningar fyrir síðastliðið reikningsár lagðir fram til samþykktar. 3. Kosningar (stjórn og skoðunarmenn reikninga) 4. Kosnir fulltrúar á aðalfund Krabbameinsfélags íslands 5. Önnur mál. 6. Ragnheiður Davíðsdóttir framkvæmdarstjóri Krafts stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein heldur erindi. Félagar og velunnarar Krabbameinsfélags Suðurnesja eru hvattir til að mæta. Stjórnin
Hundahornið
Erum drullugóðar
Þessa dagana etja Grindvíkingar kappi við Hauka í undanúrslitum Domino’s
deildarinnar. Ingunn er hreinskilin með það að hún bjóst ekki við því að vera yfir í stöðunni 2-1 á þessum tímapunkti. „Við ætluðum auðvitað að koma brjálaðar inn í serínua þar sem enginn hafði trú á okkur.“ Grindvíkingar náðu á síðustu stundu að tryggja sér sæti í undanúrslitum eftir sætan sigur gegn Keflvíkingum. „Við erum búnar að vera upp og niður lið í allan vetur. Þegar við erum að fara inn í úrslitakeppnina þá erum við í raun í fyrsta sinn að tefla fram fullskipuðu liði. Þegar við erum með fullskipað lið erum við bara drullugóðar,“ segir leikstjórnandinn.
Daníel er okkar sjötti maður
Þjálfarinn Daníel Guðni er á sínu fyrsta ári í meistaraflokki. Ingunn segir að margt jákvætt felist í því. „Hann þorir jafnvel meiru en aðrir sem eru reynslumeiri. Hann er eins og sjötti maðurinn hjá okkur. Það er smitandi hvað hann lifir sig mikið inn í þetta. Ég hef aldrei fundið neina neikvæða strauma frá honum, hann nær að snúa öllu á jákvæðar nótur.“ Ingunn segist hafa viljað reyna eitthvað nýtt í körfunni og því ákvað
Keflvíkingar lána Alexander til Þróttara
Marín Laufey glímudrottning í fjórða sinn
■■Markahæsti leikmaður í sögu félagsins kominn heim Keflvíkingar hafa lánað Alexander Magnússon til granna sinna í Vogunum. Alexander hefur verið að glíma við þrálát meiðsli síðustu ár og lék t.d. aðeins fimm leiki með Keflvíkingum í Pepsi-deildinni í fótbolta í fyrra. Áður lék hann um árabil með Grindavík eftir að hann yfirgaf uppeldisfélagið Njarðvík. Alexander mun koma til með að styrkja Þróttara gríðarlega í 3. deild, enda reynslumikill og fjölhæfur leikmaður. Þróttarar hafa styrkt sig enn frekar en Reynir Þór Valsson, markahæsti leikmaður í sögu félagsins er kominn aftur í appelsínugula búninginn.
■■Körfuboltakonan Marín Laufey Davíðsdóttir leikmaður Keflavíkur, var um helgina krýnd glímudrottning Íslands í fjórða skipti á ferlinum. Marín gekk til liðs við Keflavík árið 2014 en hún er aðeins 20 ára gömul. Hún á að baki leiki í yngri landsliðum í körfuboltanum, en hún hefur einnig tekið þátt í landsliðsverkefnum í glímunni. Marín er öflugur frákastari og sterkur varnarmaður í körfuboltanum en hún er greinilega ekkert lamb að leika sér við í glímunni heldur. Rimman byrjar rosalega Í kvöld taka Njarðvíkingar á móti KR í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Domino’s deildar karla. Fyrsti leikur liðanna, sem endaði með sigri KR, hverfur þeim sem á hann horfðu líklega seint úr minni. Eftir eðlilegan fyrri hálfleik var eins og bæði lið vildu hreinlega ekki skora í upphafi seinni hálfleiks. Hræðileg hittni og tapaðir boltar á báða bóga. Þrátt fyrir það var leikurinn æsispennandi og þurfti tvívegis að framlengja áður en KR hafði tveggja stiga sigur. Rimma liðanna í fyrra var körfuboltakonfekt og það sama virðist ætla að verða á boðstólnum í ár.
Skráðu þig í afsláttarklúbb Hundahornsins og fáðu afslátt strax í dag!
Stóru-Vogaskóli í fyrsta sinn í úrslit Skólahreysti
Það er frítt – Engin skuldbinding – Pottþéttur sparnaður
■■Keppnislið Stóru-Vogaskóla í Skólahreysti er í fyrsta sinn komið í úrslit keppninnar vinsælu þar sem grunnskólar landsins etja kappi í hinum ýmsu íþróttagreinum. Liðið var stigahæst liða sem höfnuðu í öðru sæti í sínum riðli, með 43,5 stig og hefur því öðlast keppnisrétt í úrslitum. Holtaskóli bar sigur úr bítum í riðli Reykjaness og Hafnarfjarðar og hefur því þegar tryggt sér keppnisrétt í úrslitum. Tólf skólar munu mætast í úrslitum sem fram fara þann 20. apríl.
Allt um málið á Facebook síðunni okkar og í Fitjum, Njarðvík.
hún að ganga til liðs við Grindavík frá uppeldisfélaginu Keflavík. „Það voru mjög miklar breytingar í Keflavík og ég stökk því á gott tækifæri í Grindavík.“ Þar líður henni mjög vel og segir bæjarbúa hafa tekið sér opnum örmum.
fimmtudagur 7. apríl 2016
FS-INGUR VIKUNNAR
HRÆÐIST GRINDVÍKINGA MEST AF ÖLLU
Á hvaða braut ertu? Ég er á húsasmíðabraut. Hvaðan ertu og aldur? 20 ára Garðbúi.
Helsti kostur FS? Æðislegt fólk og skemmtilegt félagslíf. Áhugamál? Tónlist, leiklist, knattspyrna og margt annað. Hvað hræðistu mest? Grindvíkinga….. Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Magnþór Breki mun taka við af Birni Braga sem spyrill Gettu-betur. Þið lásuð það fyrst hér! Hver er fyndnastur í skólanum? Heba, ekki spurning! Hvað sástu síðast í bíó? The Brothers Grimsby, fáránlega fyndin! Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Sóma samlokur.
Eftirlætis: Kennari: Gunni Vald. Fag í skólanum: Stoð. Sjónvarpsþættir: How to Get Away with Murder eru að koma sterkir inn.
23
VÍKURFRÉTTIR
ATVINNA
Vantar bifvélavirkja eða vanan verkstæðismann til starfa. Nauðsynlegt að umsækjendur séu bæði talandi á íslensku og skrifandi. Umsóknum svarað á staðnum.
Hver er þinn helsti galli? Ég er rosalega kaldhæðinn og það getur verið galli þegar maður talar við fólk sem fattar það ekki, fátt leiðinlegra en þegar maður þarf að útskýra allt sem maður segir.
Iðavellir 9c - 230 Reykjanesbæ - Sími: 421 8085 - Farsími: 857 9979
Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér? Facebook, twitter, snapchat. Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Að skólinn byrjaði alltaf klukkan 9. Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? Er farinn að segja „einmitt” rosalega oft núna…veit ekki af hverju. Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Rosalega gott. Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Klára húsasmíðina og svo kemur bara í ljós hvað ég geri. Hver er best klædd/ur í FS? Marinó minn er alltaf eins og milljón dollarar.
Kvikmynd: Í augnablikinu er það Deadpool. Hljómsveit/tónlistarmaður: Ásgeir Trausti er drengur sem ég get ekki hætt að hlusta á. Leikari: Will Ferrell.
Car rental seeking staff Sigurður Smári Hansson Sigurður Smári Hansson er FS-ingur vikunnar. Hann stundar nám á húsasmíðabraut og er framkvæmdastjóri nemendafélagsins. Vefsíður: facebook og twitter. Flíkin: Morocco búningurinn sem ég keypti í útskriftarferðinni. Skyndibiti: Villi. Hvaða tónlist/lag fílarðu í laumi (gulity pleasure)? Everybody - Backstreet Boys.
We are looking for cheerful, fun and ambitious employee´s to work with us in a rapidly growing company with focus on tourists. Do you want to work in a workplace where you really matter, and are not one of the crowd? Full time and part time available, english language spoken and written is required Customer service, cleaning and general car rental care Application deadline is 18. apríl 2016. The application must be accompanied by a resume (CV) to:
STARF@FAIRCAR.IS
Auglýsingasíminn er 421 0001
Vordagar 7. - 11. apríl Fullar búðir og veitingastaðir með spennandi vortilboð á góðu verði. Hlökkum til að sjá þig!
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001
Mundi
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
facebook.com/vikurfrettirehf
VIKAN Á VEFNUM
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
ÞAÐ ER ALLT ÞRÁÐLAUST Á ÞESSUM BÆNUM
Valdimar Guðmundsson @ValdiMumma Mér skilst að Út úr þögninni með hljómsveitinni Valdimar hafi verið spilað á Rúv fyrir #cashljós. Það er fyndið, annað en efni þáttarins.
Glæsileg og öflug
TILBOÐ
119.900Verð áður 139.900-
Kjartan Már @KjartanMar Jóhanna og Jóhannes.. til hamingju með kvöldið. Til hamingju Ísland með þessi tvö #cashljós #igt3
Uppfærðu í SSD disk
Sara Dögg @SaraMargeirs Orðlaus #igt3 #JóhannaRuth
Gudlaugur Helgi Sigurjonsson Fyrsti fundur morgunsins var frekar á n æ g j u l e g u r. Kannaðist eitthvað við munderíngu Unnar Steinn Bjarndal, erum svo með’idda #tískuslys #trendsetters Bjarni Thor Kristinsson Merkilegt að fylgjast með Fésbókinni núna. Meirihluti vina minna er á vinstri vængnum enda mestmegnis lattelepjandi listamenn og afætur. Svo er líka hópur af hægri mönnum í vinahópnum. Sá síðarnefndi hefur verið frekar þögull þangað til Bjarni Ben kom í Kastljósið og sneri vörn í sókn. Nú er baráttan hafin á ný. Dagný Maggýjar Hringdi í helstu goðsagnir íslenskrar tónlistarsögu rétt áðan: Gunnar Þórðarson, Helgu Möller og Magnús Þór Sigmundsson. Þau voru öll í símaskránni og svöruðu mér góðfúslega. Ég elska litla Ísland.#songvaskald Kjartan Már Kjartansson ....og svona túlkar Andri Már afastrákur atburði dagsins.....
HP Probook
455 A8-7410 15,6” Örgjörvi:
AMD Quad Core A8-7410 2.2 GHz, Turbo Speed: 2.5 GHz Vinnsluminni: 8GB (1x8GB) 1600MHz (Max 16GB) Geymslumiðlar: 500GB 7200RPM harður diskur Skjákort: Radeon R6 með 2GB minni Geisladrif: DVD+/-RW SuperMulti DL skrifari Lyklaborð: Í fullri stærð með talnaborði, vökvavarið. Íslenskir stafir Rafhlöðuending: Allt að 8 klst.
Stækkaðu vinnsluminni í 16GB. 7.500 kr. Stækkaðu harða diskinn í 240GB SSD og fáðu 500 GB flakkara frítt með. 20.000 kr.
Garðar Örn Arnarson @gardarorn23 Sigurður Ingi er með þumalhring!!! Aldrei treysta fólki með þumalhring, aldrei. Jón Björn Ólafsson Við búum rétt hjá Valhöll, hávær mótmæli voru þar fyrir utan áðan. Rósa Kristín (4ra ára) gallaði sig í hjólamúnderinguna sína, reif fram sparkhjólið og splæsti í þessa: „Ég vil fara út til forsætisráðherra að sjá hann kasta eggjum.“
Jóhanna Ruth verður að passa að Reykjanesbær komist ekki í verðlaunaféð...
Stækkaður harða diskinn í 480GB SSD og fáðu 500 GB flakkara frítt með. 35.000 kr.
Til í hvítu eða gráu
LENOVO
LENOVO
DELL
YOGA3 14 FHD I3 5005
G50-80
Inspirion 15 (3551)
Verð 119.900 kr.
Verð 84.900 kr.
Verð 69.990 kr.
Snilldar vél með snertiskjá og frábærum eiginleikum
Kraftmikil vél á frábæru verði fyrir vinnuna eða skólann
Inspirion 15 úr 3000 línunni frá Dell býður gæða frammistöðu.
Örgjörvi: Intel Core i3 5005u 2,0GHz dual core 3MB HT. Minni: 4GB 1600MHz DDR3L (stækkanlegt í 8GB, 1 rauf). Skjár: 14" IPS LED 10 punkta snertiskjár m. myndavél og Gorilla glass vörn. Upplausn: FHD IPS 1920x1080 punkta. Diskur: 256GB SSD 2,5" 5mm. Skjákort: Intel HD5500. Rafhlaða: Innb. LiPol 4 sellu, allt að 7 klst hleðsla. Netkort: þráðlaust AC/b/g/n, Bluetooth 4.0. Ábyrgð: 2 ár, 1 ár á rafhlöðu. Stýrikerfi: Windows 10 64 bita (home)
Örgjörvi: Intel® Pentium TM 3805U Processor 1,9GHz dual core 2MB. Minni: 8GB 1600MHz DDR3L (8GB mest). Skjár: 15,6” HD m. myndavél. Upplausn: 1366x768 punkta. Diskur: 500GB 5400sn. Skjákort: Intel HD. Rafhlaða: Innb. LiIon 4 sellu, allt að 4 klst hleðsla. Netkort: þráðlaust 3160 AC/b/g/n og Bluetooth 4.0. Ábyrgð: 2 ár, 1 ár á rafhlöðu. Stýrikerfi: Windows 10 64bita (home)
Örgjörvi: Intel Celeron N2840 (2.58GHz, 1MB, Dual Core). Vinnsluminni: 4GB 1600MHz DDR3L. Diskur: 500GB Serial ATA 5400rpm harður diskur. Skjástærð: 15.6” HD WLED True-Life skjár
SONY
BOSE
SONY
PLANTRONICS
BLUETOOTH SRX55
SoundLink ll Mini
Bluetooth heyrnartól
BackBeat FIT
Verð 24.900 kr.
Verð 34.900 kr.
Verð 17.990 kr.
Verð 15.990 kr.
Mögnuð hljómtæki fyrir snjallsímann og fleira. Einnar snertingar tenging með NFC og Bluetooth
Frábær Bluetooth hátalari. UPPLIFÐU BOSE GÆÐI
Flott þráðlaus heyrnartól með míkrófóni. Rafhlaða allt að 30 klst.
Þráðlaust stereo BlueTooth heyrnartól frábært í ræktina sem þolir bæði svita og raka
HAFNARGATA 40 - S. 422 2200
Úrvalið af tölvu og fylgihlutum eru í Omnis
REYKJANESBÆ