Skip to main content

15 tbl 2017

Page 1

• miðvikudagurinn 12. apríl 2017 • 15. tölublað • 38. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Kvenprestarnir í Keflavíkurkirkju

Ekki búa til annan Breivik ■■Hin tvítuga Azra Crnac hefur búið á Íslandi alla sína ævi en er ættuð frá Bosníu. Azra aðhyllist íslam eða múslimska trú en aðspurð um trúna segir hún hana snúast um frið og sátt. „Íslam snýst bara um það sama og önnur trúarbrögð. Að lifa í sátt og samlyndi og að koma vel fram við aðra. Þetta er ekki það sem margir halda.“ Azra segist alveg hafa orðið fyrir aðkasti. „Ef ég nefni eitt dæmi, þá sendi ákveðinn einstaklingur mömmu minni persónuleg skilaboð á facebook þar sem hún var beðin um að vera ekki að ala upp fleiri Breivik hér á landi og vísaði þá í mig. Þetta eru örugglega þau ummæli sem sitja hvað mest eftir í mér.“

■■Tvær ungar konur eru við stjórnvölinn í Keflavíkurkirkju en það er ekki algengt í kirkjum landsins. Erla Guðmundsdóttir er sóknarprestur og hefur verið með karlaprestum í kirkjunni síðastliðinn áratug. Nú er hún með aðra unga konu sér við hlið í preststarfinu. Hún heitir Eva Björk Valdimarsdóttir. Þriðja konan í Keflavíkurkirkju er rekstrarstjórinn Þórunn Þórisdóttir en fjórði fasti stafsmaðurinn er organistinn Arnór Vilbergsson. Léttleikinn er nokkuð áberandi í kirkjunni og fjölbreytt starfið þar er altalað. „Við lærðum ekki að vera skemmtilegar í guðfræðinni,“ sögðu þær Erla og Eva Björk léttar í bragði en þær sitja fyrir svörum í Víkurfréttaviðtali um ýmis mál sem tengjast kirkjunni og kristinni trú. Viðtalið er á bls. 2 og svo er einnig sjónvarpsviðtal við þær stöllur í Suðurnesjamagasíni vikunnar.

Framkvæmdir hafnar við 500 íbúðir

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri tók fyrstu skóflustunguna með gullskóflu og tók svo stærri stungu með stóru vélinni.

Fyrsta skóflustungan að nýju íbúðahverfi í Hlíðahverfi í Reykjanesbæ var tekin í síðustu viku. Það kom í hlut Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, að taka skóflustunguna. Hlíðahverfi mun rísa á svæði sem hefur gengið undir nafninu Nikel-svæðið undanfarna áratugi. Það er BYGG, Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., sem hefur keypt byggingalandið, um 34 hektara lands þar sem hefur verið skipulögð byggð með allt að 485 íbúðum ásamt atvinnuhúsnæði. Deiliskipulag fyrir hluta byggingarlandsins er þegar samþykkt og gerir ráð fyrir byggingu á samtals 300 íbúðum. Gatna- og holræsagerð hefur verið unnin að hluta til á svæðinu og hægt er að hefja framkvæmdir á hluta lóðanna nú þegar. Samkvæmt gildandi Aðalskipulagi Reykjanesbæjar er gert ráð fyrir byggingu allt að 185 íbúða til viðbótar. Í áfanga eitt, sem er Grænalaut 1-31 og Hallalaut 1-15, verða fimm tveggja hæða fjölbýlishús með samtals 48 íbúðum, þetta eru 4 herbergja 100 fm. íbúðir. Tvö raðhús með samtals 7 íbúðum, 130 fm. hús með bílskúr. Átta

parhús þá með 16 einingum þar sem stærð hverra eininga er um það bil 170 til 200 fm. og fjórtán einbýlishús sem eru um 210 til 250 fm. Samtals í þessum fyrsta áfanga eru því 86 íbúðir og áætlar Hörður Már Gylfason, framkvæmdastjóri BYGG, að fyrstu kaupendur flytji inn fyrir skólaárið 2018. Mikið líf verði því komið í hverfið fyrir jólin 2018 og það verður klárað 100% með öllum lóðafrágangi sumarið 2019. Áfangi tvö í Hlíðahverfi er stærri hluti í fjölbýli eða 170 af 235 í heild. Sumarið 2018 er svo áætlað að fara yfir Skólaveginn og byrja á Efrilaut og Asparlaut. Áfangi 3 er svo með fleiri stærri fjölbýlishús. Þar er deiliskipulag ekki klárt en vinna er að hefjast við það. Samkvæmt aðalskipulagi Reykjanesbæjar eru áætlað að 185 til 200 íbúðir verði byggðar á því svæði. Hörður Már segir að samtals verði í hverfinu yfir 500 íbúðir og byggingahraði fari auðvitað eftir söluhraða. Áætlun hljóðar upp á 7 til 10 ára ferli ef allt gengur upp og að fullbúið hverfi með öllu verði afhent eftir áratug.

Forráðamenn Reykjanesbæjar og Bygg eftir skóflustunguna. VF-myndir/pket.

Hafnargötu 20, 230 Reykjanesbær S: 420 4000

FÍTON / SÍA

Guðlaugur H. Guðlaugsson lögg. fasteignasali einföld reiknivél á ebox.is

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Halldór Magnússon lögg. fasteignasali Brynjar Guðlaugsson aðstm. fasteignasala Haraldur Freyr Guðmundsson aðstm. fasteignasala studlaberg@studlaberg.is

studlaberg.is


2

VÍKURFRÉTTIR

miðvikudagur 12. apríl 2017

KONURNAR HAFA ALLTAF VERIÐ Í KRINGUM KIRKJUNA

●●Erla Guðmundsdóttir og Eva Björk Valdimarsdóttir eru prestarnir í aldar gamalli Keflavíkurkirkju. ●●Léttleiki og fjölbreytni er í kirkjustarfinu. „Konurnar hafa alltaf verið í kringum kirkjuna, stutt hana af verkum, tíma og einstakri natni. Við erum þær fyrstu sem leiða hana í prestþjónustunni. Þannig að það er kannski aðeins meiri móðurlegri ásýnd,“ segir Erla Guðmundsdóttir, sóknarprestur Keflavíkurkirkju en önnur ung kona sinnir preststörfum í kirkjunni. Það er hún Eva Björk Valdimarsdóttir. Keflavíkurkirkja er rétt 100 ára gömul og hefur í gegnum árin verið karlaveldi. Það er því svolítið nýmóðins að það séu nú tvær ungar konur við stjórnvölinn. Erla, nú hefur þú verið við stjórnvölinn í áratug. Hvernig hefur þetta gengið hjá ykkur konunum? Erla: „Í um öld hafa karlmenn verið í embættisverkum og leitt kirkjuna. En það sem er svo fallegt við Keflavíkurkirkju er konurnar sem hafa verið í kring, konurnar sem voru drifkrafturinn, hafa saumað og fært muni til kirkjunnar. Og konurnar í fátæka

sjávarþorpinu í Keflavík sem söfnuðu fyrir og fengu ungan mann til að mála sem var Ásgrímur Jónsson. Þannig að konurnar hafa alltaf verið í kring um kirkjuna, stutt hana af verkum, tíma og einstakri natni. Við erum þær fyrstu sem leiða hana í prestþjónustunni. Þannig að það kannski aðeins meiri móðurlegri ásýnd.“

VIÐBURÐIR KYNNINGAFUNDUR UM HEILSUEFLINGU FYRIR 65+ Áhugi er á að koma á skipulagðri heilsueflingu til lengri tíma fyrir 65 ára og eldri í Reykjanesbæ. Kynningarfundur um verkefnið verður 18. apríl kl. 20:00 á Nesvöllum. Enginn kostnaður í þátttöku verkefnis. OPNUN/LOKUN YFIR PÁSKAHÁTÍÐINA Sundmiðstöð/Vatnaveröld

Duus Safnahús og Rokksafn

Opið 13. apríl kl. 9:00 - 17:00 Lokað 14. apríl Opið 15. apríl kl. 9:00 - 17:00 Lokað 16. apríl Opið 17. apríl kl. 9:00 - 17:00.

Lokað 13. og 16. apríl Aðra daga er hefðbundinn opnunartími.

Íþróttamiðstöð Njarðvíkur Lokað 13. - 17. apríl.

Ráðhús -þjónustuver og bókasafn Lokað 13. - 17. apríl. Gleðilega páskahátíð!

LAUS STÖRF FRÆÐSLUSVIÐ VINNUSKÓLI UMHVERFISSVIÐ HEIMILI FATLAÐS FÓLKS ÍBÚAKJARNI SELJUDAL FJÁRMÁLASVIÐ SUNDMIÐSTÖÐ LYNGMÓI HÆFINGARSTÖÐIN

Sérkennslufulltrúi/deildarstjóri Störf í garðyrkjuhópi Skipulagsfulltrúi Umönnunarstörf Félagsliði eða stuðningsfulltrúi Sérfræðingur í launadeild Starfsmaður á vaktir Sumarstarf Tímabundin staða

Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni Reykjanesbær - laus störf.

Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.

Hvernig fannst þér að koma til Keflavíkur Eva, það er mikil saga hér í þessum bítlabæ? Eva: „Já, ég er að læra hana smám saman, kynnast kirkjunni og samfélaginu. Það var mjög vel tekið á móti okkur fjölskyldunni. Það er gaman að koma hingað. Ég bjó í Reykjavík áður en kom frá Akureyri, þannig að við erum bæði að norðan hjónin. Okkur finnst það góð tilfinning að koma hingað í minna samfélag. Það er margt líkt með Akureyri og Keflavík. Þetta er svipuð stærð og við erum alltaf í samkeppni við höfuðborgarsvæðið. Hér er öflugt íþróttastarf, góðir skólar og vel haldið utan um fjölskylduna.“ Saga Keflavíkurkirkju er mjög merkileg, hvernig kirkja varð til í Keflavík fyrir um 100 árum síðan. Erla: „Já hún er merkileg, falleg og hún er svo mikið merki um frumkvöðla og stórhuga hjörtu sem vildu byggja sér helgidóm við sjóinn og hann stendur fokeldur í um 4 ár þangað til að hann fýkur og er rifinn vegna þess að hann skekktist mikið í óveðri. Keflvíkingarnir halda áfram. Verslunarmaðurinn Duus eða Ólafur Ólafsson sagði: „Ég skal borga helminginn af skuldunum og helminginn af nýrri kirkju, haldið áfram. Byggjum okkur kirkju.“ Það voru haldnar tombólur og fleira og það var safnað fyrir helgidómi. Þannig voru kirkjur byggðar. Það fýkur í mig þegar talað er um að kirkjur séu byggðar fyrir skattpeninginn. Kirkjurnar eru byggðar af fólkinu, af framlögum, þannig er Keflavíkurkirkja byggð og hún var ein af fyrstu steyptu kirkjum landsins. Hún er svo ótrúlega fögur og nýmóðins þessi klassíska kirkja sem tekur við af timburkirkjunni. Okkur finnst þessi madamma vera ein af þeim glæsilegustu á landinu.“ Það hafa verið breytingar og endurbætur á kirkjunni síðustu ár sem er að mestu lokið við. Svo er verið að laga orgelið sem er mikilvægt í kirkjunni. Erla: „Endurbæturnar hófust 2012, Páll V. Bjarnarson, Keflvíkingurinn og arkitektinn, leiddi þá vinnu. Það er mikil rannsóknarvinna sem hann gerði, hann rannsakaði liti og annað til að færa hana sem næst sínum uppruna. Færa inn gömlu munina, eins og gamla predikunarstólinn, grátur og annað. Því lauk síðasta sumar með því að gluggarnir eru komnir eins og Rögnvaldur Ólafsson teiknaði þá. Það kom í ljós að það var lítið burðarþol í söngloftinu þannig að það var lagað og stækkað. Af því að erum að fara að laga orgelið. Það verkefni gengur vel.“ Hefur hlutverk prestsins breyst mikið síðustu ár? Eva: „Já, hlutverkið hefur breyst mikið síðustu ár. Prestarnir voru oft eina menntaða fólkið á svæðinu og gerðu því oft margt sem þeir áttu ekki að gera eða voru ekki menntaðir til. Okkur finnst þetta mjög skrýtið í dag. Þar sem þeir höfðu bóklega menntun, þá gerðu þeir það og voru á sumum stöðum læknar. Nú er hlutverkið sér-

hæfðara og við erum meira að þjónusta fólk. Okkur er ennþá tekið þannig að við höfum mikilvægu hlutverki að gegna. Fólk ber ennþá virðingu fyrir prestinum. Það er einnig þegar maður er ungur og nýkominn úr námi þá tekur það smá tíma að venjast því að þetta er ákveðin staða og virðing. Svo erum við líka sem kirkja í öðruvísi stöðu, við erum alltaf að afsaka okkur og að afsaka tilveru okkar af því að umræðan er líka neikvæð. Í sumu samhengi er maður að afsaka tilveru sína en á öðrum stöðum er mikil virðing. Þetta er svolítið klofið.“ Fáið þið eitthvað aðra virðingu vegna þess að þið eruð konur af því að þetta er búið að vera mjög karllægt starf í gegnum aldirnar? Eva: „Ég heyri bara þetta jákvæða að það séu komnar tvær konur og finnst hressleiki fylgja okkur. Erla setur svolítið tóninn með það. Hún vill hafa kirkjuna lifandi og við höfum mikinn metnað fyrir starfinu. Kannski hefur það bara með okkur að gera en ekki kynið. Ég heyri bara þetta jákvæða. Fólk tekur okkur vel og finnst gaman að það séu tvær konur sem prestar. Ég hef gaman af því að segja frá því að árið 2015 þegar ég var vígð hingað var það fyrsta árið sem það voru tvær konur prestar starfandi í einni kirkju. Selfoss var reyndar á undan okkur en svo kom Keflavíkurkirkja. Þannig að það var ekki fyrr en 2015 sem tvær konur voru starfandi við eina kirkju en enginn karl.“ Nú er stærsta hátíð kristinna manna, páskarnir, að ganga í garð. Núna er líka tími ferminganna. Er þetta annasamur tíma hjá ykkur? Eva: „Þetta er skemmtilegur tími. Það er ofsalega gaman að halda upp á páskana. Þeir eru gleðihátíð og svo eru fermingarnar eitt af því skemmtilegasta sem við gerum.“ Hafa orðið miklar breytingarnar á fermingunni í gegnum árin? Það er talað um að sumir vilji láta ferma sig vegna veislu og gjafa? Hver er ykkar upplifun? Eva: „Mín upplifun er sú að þetta viðhorf sé meira ríkjandi hjá fólkinu sem er að spyrja. Ég held að krakkarnir hugsi ekki svona. Þau eru virkilega að pæla í því hvort þau vilji fermast. Núna eru borgaralegar fermingar líka í boði og sum fermast ekki. Fermingarbörnin eru að fermast því þau vilja það. Ég held að við þurfum að vanda okkur aðeins betur þegar við erum að ræða við krakka. Ég sá um daginn viðtal í þætti Gísla Marteins á RÚV þar sem spyrillinn var með leiðandi spurningar og þá brugðust krakkarnir allt öðruvísi við. Við þurfum að virða þeirra val og þeirra trú. Þau eru flest að gera þetta af heilum hug.“ Erla: „Ég algjörlega sammála. Þú spyrð ekki brúðhjón hvort þau séu að gifta sig vegna gjafanna. Þetta eru stór tímamót og vissulega er tilhlökkun vegna gjafanna. Við erum með krökkunum í þrjá daga að hausti í Vatnaskógi og hittum þau svo vikulega. Það

er ótrúlega gaman að ræða við þau um trúna og efann sem henni fylgir, það er eins og harmónían í lífinu er, þessar andstæður. Þau eru hugsi, enda er þetta þannig aldur.“ Taka börnin virkan þátt í fermingarundirbúningnum? Hefur hann eitthvað breyst í gegnum árin? Erla: „Þau finna að þau eru miðpunktur fjölskyldunnar þennan vetur. Þetta snýst um þau. Heima fyrir er þetta svo mikið umræðuefni. Trúin, efinn, sorgin og kærleikurinn sem við fjöllum um í fræðslunni. Foreldrar eru líka virkir þátttakendur hjá okkur. Fermingarforeldrar skiptast á að aðstoða við súpu eftir messu á sunnudögum. Það er gaman að segja frá því að mörg börn mæta í fleiri messur en þau eiga því þeim finnst svo gott að eiga þennan fasta punkt.“ Finnið þið þessa breytingu á samfélaginu, að hér búi fleiri af erlendum uppruna? Erla: „Já, við finnum að þau sækja til okkar í sálgæslu, athafnir, skírnir og sorgarúrvinnslu. Svo eru líka margir sem vilja fá kirkjuna bara til þess að dvelja í henni.“ Það er talað um að í dag séu fleiri hjónaskilnaðir en áður fyrr. Hvernig upplifið þið það? Erla: „Ef fólk á börn sem eru yngri en 18 ára þarf það að koma fyrst til prestsins til að fá sáttavottorð áður en það fer til sýslumanns. Fólk neyðist því til að fara til prestsins ef það er gift og á börn á þessum aldri. Blessunarlega erum við ekki oft að gefa út sáttavottorð því þetta eru bara samskipti sem þarf að laga og margir hnútar að leysa til að greiða úr flækjunni en jú, þau eru mörg viðtölin sem við förum í.“ Eva: „Það er misjafnt hversu snemma fólk kemur. Ef það kemur áður en vandinn er orðinn það mikill að það hefur ákveðið að skilja þá náum við stundum að leysa úr því. En stundum er fólk búið að ákveða að skilja þegar það kemur til okkar og stundum er það kannski ekki það versta.“ Er hægt að benda á eitthvað sérstakt sem virðist vera að í hjónaböndum í dag? Eva: „Við, sem þjóðfélag, erum vön því að það séu til skyndilausnir á hlutunum. Kannski fer fólk í það of fljótt að skilja eða ef það hefur ekki fundist lausn strax, þá gefst það upp. Þjóðfélagið og umræðan litast af þessu. Við höldum alltaf að það sé eitthvað nýtt og betra handan við hornið.“ Nú eru páskarnir að ganga í garð og því mikil dagskrá framundan í Keflavíkurkirkju. Á skírdag er Taisemessa og altarisganga klukkan átta um kvöldið. Á föstudaginn langa verður messa klukkan 14. Hátíðarmessa og morgunverður er klukkan 9 á páskadag. Á annan í páskum er börnum boðið í sunnudagaskóla og páskaeggjaleit.


Ekinn

VW E-Golf 85kW rafbíll

8.000

4.370.000

2016

TILBOÐ

3.990.000

Raf / Bensín Ekinn þús. km.

30

Úrvals Heklubílar í Reykjanesbæ

Myndir á vef

36

Dísil Fjórhjóladrif

VW Polo Comfortline 1.2 TSI 2014

Metan & bensín Sjálfskiptur

2.460.000

11 Skoda Fabia Ambition 2015

Beinskiptur

2.980.000

Rafmagnsbíll

Fleiri tilboðsbílar og myndir á netinu: heklarnb.is

80

84

VW Golf Highline 1.4 TSI 2012

Skoda Superb Combi 2.0 TDI 190hö. 4X4

2.390.000

2016

47 Audi A3 Sportback 1.4 TFSI 2013

3.660.000

2013

VW Tiguan Track&Style 2.0 TDI 4X4

MMC Outlander Intense 2.2 DID 4X4

2.690.000

36

26

59 Ford Focus Station Titanium 2.0

5.390.000

2014

2015

5.240.000

4.790.000

212 22 Peugot 208 Active 1.2 2013 TILBOÐ

2.090.000 1.690.000

82 Suzuki Grand Vitara Premium 4X4 2010 TILBOÐ

2.590.000 1.990.000

VW Touareg V6 3.0 TDI

VW UP TakeUP 1.0 MPI

2007

2.950.000

2016

1.830.000

TILBOÐ

2.490.000

TILBOÐ

1.620.000

Njarðarbraut 13 Reykjanesbæ Símar 590 5091 og 590 5092 www.heklarnb.is

1,5


markhönnun ehf

Gleðilega páskahelgi! -50%

-37% GRÍSABÓGAR HRINGSKORNIR KR KG ÁÐUR: 998 KR/KG

499

HAMBORGARHRYGGUR KR KG ÁÐUR: 1.585 KR/KG

999

-32% LAMBAHRYGGUR FERSKUR KRYDDAÐUR KR KG ÁÐUR: 2.197 KR/KG

1.494

-30% -30%

LAMBALÆRI ÚRBEINAÐ MEÐ PIPAROSTI & RÓSMARÍN KR KG ÁÐUR: 3.598 KR/KG

2.519

-31% LÆRISSNEIÐAR KRYDDAÐAR KR KG ÁÐUR: 2.860 KR/KG

1.973

LAMBALÆRI KRYDDAÐ MEÐ ÍSLENSKU LAMBAKRYDDI KR KG ÁÐUR: 2.860 KR/KG

1.679

NAUTALUNDIR

3.278 KRKG ÁÐUR: 3.998 KR/KG

Verðsprengja í ferskum lærum! ÓDÝRT Í

LAMBAHRYGGUR FYLLTUR KR KG ÁÐUR: 3.669 KR/KG

2.568

-30%

-40%

LAMBAHRYGGUR LÉTTREYKTUR KR KG

2.198

-50%

-10%

LAMBALÆRI - FERSKT KR KG

1.199

KJÚKLINGABRINGUR KR KG

ÁÐUR: 1.998 KR/KG

ÁÐUR: 2.098 KR/KG

1.888

Tilboðin gilda 12. - 16. apríl 2017

BAYONSTEIK KR KG ÁÐUR: 1.998 KR/KG

999

Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


-50%

BLÁBER 500 GR. FATA

599

KR FATAN ÁÐUR: 1.198 KR/FATAN

40% afsláttur á öllum erlendum páskaeggjum

CADBURY DAIRY MILK EGG LARGE KR PK ÁÐUR: 1.898 KR/PK

1.139

MARS PÁSKAEGG 280 GR. KR PK ÁÐUR: 698 KR/PK

419

CADBURY PÁSKAEGG OREO 278 GR. KR PK ÁÐUR: 799 KR/PK

479

-40%

CADBURY PÁSKAEGG DOUBLE DECKER 307 GR. KR PK ÁÐUR: 898 KR/PK

BLACK MAGIC PREMIUM EGG 374 GR. KR PK ÁÐUR: 1.898 KR/PK

539

1.139

Við erum í páskastuði!

MARS PÁSKAEGG 331 GR. KR PK ÁÐUR: 1.198 KR/PK

719

QUALITY STREET EGG HONEYCOMB 162 GR. KR PK ÁÐUR: 698 KR/PK

419

GALAXY PÁSKAEGG GOLDEN 233 GR. KR PK ÁÐUR: 698 KR/PK

419

M&M PÁSKAEGG PEANUT LUXURY 313 GR. KR PK ÁÐUR: 1.098 KR/PK

MALTEASTER PÁSKAEGG LUXURY 265 GR. KR PK ÁÐUR: 1.098 KR/PK

CELEBRATIONS PÁSKAEGG 248 GR. KR PK ÁÐUR: 698 KR/PK

GALAXY PÁSKAEGG INDULGENCE 308 GR. KR PK ÁÐUR: 1.098 KR/PK

659

FERRERO GRAND ROCHER EGG 100 GR. KR PK ÁÐUR: 1.098 KR/PK

MALTESERS PÁSKAEGG TEASERS 248 GR. KR PK ÁÐUR: 698 KR/PK

SNICKERS PÁSKAEGG 274 GR. KR PK ÁÐUR: 698 KR/PK

M&M PÁSKAEGG PEANUT 135 GR. KR PK ÁÐUR: 498KR/PK

MARS PÁSKAEGG 141 GR. KR PK ÁÐUR: 498 KR/PK

MALTESER PÁSKAEGG 127 GR. KR PK ÁÐUR: 498 KR/PK

659

419

659

419

419

299

299

659

299

www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hafnarfjörður · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss


6

VÍKURFRÉTTIR

miðvikudagur 12. apríl 2017

Veröld í heimi Bakkusar „Það var snemma sem ég lærði Æðruleysisbænina“ Magnús Guðbergsson - (1955-1997) Faðir minn, Magnús Guðb e rg ss on, v ar fæddur á Húsatóftum í Garði þann 4. janúar 1955. Hann var næst yngstur af níu systkinum og bjó allan sinn aldur í Garðinum utan síðustu áranna á Hringbraut í Keflavík. Pabbi átti góða og heilbrigða æsku og ólst upp í góðu yfirlæti hjá foreldrum sínum Guðbergi Ingólfssyni og Magnþóru Þórarinsdóttur á Húsatóftum í Gerðum. Pabbi var hæfileikaríkur maður, sniðugur og orðheppinn með eindæmum, eins og hann átti kyn til. Hann starfaði lengst af ævi sinnar við bílaviðgerðir og þótti bæði handlaginn og lúnkinn í sínu fagi. Fyrir 20 árum síðan tók faðir minn, Magnús Guðbergsson, stóra ákvörðun í sínu lífi. Honum fannst sér betur borgið í landi guðs og féll fyrir eigin hendi 7. apríl 1997. Öll börn, sem sjá foreldra sína undir áhrifum áfengis, upplifa mikið óöryggi. Tilfinning eins og veröldin sé að hrynja og engin geti komið þér til bjargar. Ég var 9 ára gamall er ég sá föður minn í fyrsta sinn undir áhrifum. Hann kallaði á mig úr herbergi sínu og ég heyrði strax að eitthvað var öðruvísi en vanalega. Hann lá í rúminu um hábjartan dag (sem var ekki vanalegt) og bað mig að tala við sig. Ég steig rólega inn um dyrnar á herberginu og sá að hann teygði sig í skúffu í náttborðinu og náði í pening. Því næst bað hann mig að fara út í búð og kaupa fyrir sig samloku. Ég hafði aldrei neitað að gera neitt sem hann bað mig um að gera, en í þetta sinn sagði ég strax: „Nei. Ég geri það ekki fyrir þig.“ Ég man lítið meira fyrr en síðar um kvöldið. Þá komu bræður hans og konur þeirra og reyndu að tjónka við honum og ég heyrði strax að þetta var ekki í fyrsta skipti sem það var gert. Þau reyndu að fá hann til þess að hella úr flöskunni, sem gekk ekki vel og svona gekk þetta langt fram eftir. Það var töluvert áfall að sjá fyrirmynd sína í þessu ástandi, fram að þessu hafði mig ekki grunað að faðir minn drykki áfengi, eða gerði nokkur mistök. Hann var einstaklega góður pabbi, kunni mikið af sögum, og var duglegur að finna einhvað fyrir okkur að gera. Hvort sem það var að fara í bíltúr eða heimsækja vini hans, sem er mér einstaklega minnisstætt. Einhvern tímann hafði mamma reynt að fá hann til að minnka sælgætisátið. En það stoppaði hann ekki við að koma við í sjoppunni í hver einasta skipti sem við fórum í bíltúr til að kaupa staur og kók. Hann pabbi passaði sig líka á því að ef við mættum nú mömmu í göngutúr, að heilsa henni með kókinu eða súkkulaðinu, henni til mikillar ánægju. Það má segja að þarna hafi orðið þáttaskil í mínu lífi er ég gekk inn um dyrnar á svefnherberginu. Fljótlega skildu foreldrar mínir og ég fór ásamt bróður mínum í helgarheimsóknir til pabba öðru hvoru. Það var greinilegt að pabbi reyndi að standa sig á þessum tíma og halda sig frá áfenginu, en margir í kringum hann reyndu að hafa áhrif á hann. Í stað þess að halda honum frá víninu þá var reynt að halda því að honum og ég var vitni að því mörgum sinnum. Ég man að kona ein í plássinu hringdi látlaust í hann og bað hann að kíkja í heimsókn. Hann svaraði aftur og aftur að hann væri með börnin sín og að hann væri að reyna að hætta þessu. Um nóttina vaknaði ég og það hafði tekist hjá vinum hans. Pabbi var farinn út. Pabbi átti líka í samböndum með konum sem áttu við sama vandamál að stríða, sem gerði auðvitað illt verra. Slík var drykkjan að það var engu líkara en að þær konur væru andsetnar og mér er full alvara. Hvernig hægt er að koma svo miklu af áfengi niður er mér ómögulegt að skilja. Fólk í þannig ástandi sem reynir að gefa manni foreldraleg ráð er eitthvað sem mun sitja í mér það sem eftir er. Ég er ekki að kenna neinum öðrum um neitt en eftir þetta var ekki aftur snúið hjá pabba. Oft var ástandið á honum það slæmt að hann gerði hluti sem hann hefði

aldrei undir neinum öðrum kringumstæðum gert og ég læt ósagt hér. En það er nokkuð, sem ég þarf að lifa með í höfðinu það sem eftir er. Eftir að pabbi flutti til Keflavíkur reyndi ég að fylgjast með honum, þrátt fyrir að geta lítið gert fyrir hann. Enda bara barn. Ég hjólaði til Keflavíkur til að athuga með hann. Ef hurðin var læst gat ég fylgst með gegnum skrárgatið til að athuga hvort það væri í lagi með hann. Í barnsminninu er flöskuhaf á gólfinu og allt í kringum hann flöskur sem innihéldu löglegt vímuefni. Mér er sagt að pabbi hafi verið ungur að árum er hann ánetjaðist áfengi og strax við fyrsta sopann. Hann fór í margar meðferðir á hinar ýmsu stofnanir og heimili. Það var skrítin tilfinning að heimsækja pabba á slíka stofnun. Þar sem hann mætti mér í hvítum slopp eins og sjúklingur, sem hann var. Hann skammaðist sín fyrir það og það var erfitt að sjá hve illa honum leið. Pabbi var skemmtilegur maður og ég held að hann hafi verið fljótur að kynnast fólki, sem var honum að skapi. Það var eins og hann hafi þekkt aðra vistmenn heimilisins í mörg ár. Þar voru þjóðþekktir menn og ég man sérstaklega eftir einum manni sem var kallaður „Hringur“ og var útigangsmaður. Honum og pabba virtist vera vel til vina. Pabbi kynnti mig sérstaklega fyrir honum og ég man að puttarnir á honum voru allir krepptir í hring. Síðasta skiptið sem ég hitti pabba var á Hringbrautinni í Keflavík. Hann var þá á leiðinni í meðferð og endanlega búinn að brenna allar brýr að baki sér. Það er eins og hann hafi vitað að þetta væri búið. Hann gat ekki sleppt mér eitt andartak á meðan pakkað var niður í tösku fyrir hann. Hann grátbað mig að koma og vera með sér í bílnum á leiðinni í meðferð, en ég neitaði. Mig grunaði ekki að þetta væri síðasta skiptið sem ég myndi hitta hann. Hann var hræddur og þurfti augljóslega á mér að halda en ég gat ekki látið það eftir honum, vegna þess að ég var svo reiður við hann. En það verð ég að lifa með. Ég man jarðarförina eins og hún hefði gerst í gær. Það er nefnilega svo merkilegt að fólk sem lét sig ekki varða það að ungur strákur væri að reyna hvað hann gat til að koma föður sínum til bjargar, leyfði sér að segja við mig að ég væri tilfinningalaus. Af því að ég sýndi engin viðbrögð í jarðarförinni. Það er líka merkilegt að það var allt fullorðið fólk sem var með fordóma, ekki bekkjarfélagar eða krakkar í skólanum. Kona á níræðisaldri sagði eitt sinn að pabbi væri heiðarlegasti maður sem hún hefði kynnst. Uppnuminn að heyra það, þar til hún bætti við: „Hann borgaði alltaf flöskuna daginn eftir, sem hann fékk lánaða“. Hvað fær fólk til að segja svona verður það að eiga við sig og líklega er því ekki bjargandi, komið á þennan aldur og ekki náð meiri þroska en þetta.Þegar áfengisfrumvarpið hefur komið til umræðu get ég ekki annað en vorkennt þeim sem það styðja. þetta veika frumvarp. Að vilja menga matvöruverslanir með sölu á löglegu vímuefni er enn eitt skrefið niður á við í okkar þjóðfélagi. Það sem börn alkóhóllista þurfa að þola er í flestum tilfellum neikvætt og þau eiga erfitt með að öðlast innri ró. Skömmin, sektarkenndin, kvíði, reiði og þunglyndi hefur fylgt mér fram á fullorðinsár. Þegar fyrirmyndin manns fer á þennan hátt, hefur maður ósjálfrátt sjálfur tilhneigingu að hugsa á sama veg. Maður hugsar að sjálfsvíg sé eina lausnin við erfiðu vandamáli, ósjálfrátt. En auðvitað er það ekki. Ekkert sem ég hef reynt til að komast yfir þetta hefur gengið. Sú slæma mynd sem lifir í höfði mér vegur meira á vogarskálinni en það góða. Það eitt er aðeins ein af afleiðingum þess sem þessi skæði sjúkdómur hefur haft í för með sér sem þessi góði maður og hans fjölskylda varð að gjalda fyrir. En maður reynir og vonandi mun það góða sigra að lokum. Guðmundur Magnússon

Mömmu sagt að búa ekki til annan Breivik ●●„Ég hika ekki við að segja fólki að ég sé múslimi,” segir Azra Crnac.

fá fleiri útlendinga þangað. Þú getur ekki talað um þig sem einhvern Dana, þegar þú ert aðfluttur einstaklingur, og talað svo niður til hinna, sem kannski líta ekki alveg eins út og Danir, og talað um þá sem útlendinga.” Azra segir trúna vera menningu sína og að hún skilgreini hana ekki. „Trúin mín er bara hluti af mér. Ég klæðist ekki búrku, ég drekk áfengi og ég djamma. Ég er bara mjög „venjuleg“. Ég er Íslendingur. Þó að foreldrar mínir séu frá öðru landi þá er ég fædd hérna og uppalin og ég hika ekki við að segja fólki að ég sé múslimi,” segir hún.

Sólborg Guðbrandsdóttir solborg@vf.is

Hin tvítuga Azra Crnac hefur búið á Íslandi alla sína ævi en er ættuð frá Bosníu. Áður en hún flutti til Keflavíkur árið 2011 bjó hún á Ólafsvík, þar sem hún ólst upp. Azra er með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og starfar í Apóteki Suðurnesja. Azra aðhyllist íslam eða múslimska trú en aðspurð um trúna segir hún hana snúast um frið og sátt. „Íslam snýst bara um það sama og önnur trúarbrögð. Að lifa í sátt og samlyndi og að koma vel fram við aðra. Þetta er ekki það sem margir halda.“

Vildi ekki rífast við stuðningsmenn Trump

Orðið fyrir aðkasti á netinu

Hún segist persónulega ekki verða fyrir miklum fordómum, en þegar fólk komist að trúnni hennar breytist hlutirnir svolítið. „Ég er nefnilega svo einstaklega „heppin“ að ég er frekar hvít á hörund. Ég er ekkert frábrugðin öðrum Íslendingum, annað en það að ég er frekar dökkleit hvað varðar hárið og augun til dæmis. En svo þegar fólk veit hvað ég heiti eða á hvað ég trúi á þá breytist það stundum hvernig fólk lítur á mig. Ég upplifi alveg þessa fordóma, en þeir eru meira á bak við mig, á netinu. Fólk leyfir sér að segja svo margt þar. Ég hef alveg orðið fyrir aðkasti. Ef ég nefni eitt dæmi, þá sendi ákveðinn einstaklingur mömmu minni persónuleg skilaboð á facebook þar sem hún var beðin um að vera ekki að ala upp fleiri Breivik hér á landi og vísaði þá í mig. Þetta eru örugglega þau ummæli sem sitja hvað mest eftir í mér. En annars þegar ég upplifi fordómana í persónu þá er þeim oftast ekki beint til mín, heldur heyri ég fólk tala um aðra múslima til dæmis, án þess að það átti sig á því hver ég sé og hvaðan ég komi,“ segir hún.

Telur fjölmiðla hræða

Azra segir fréttamiðla hafa mikil áhrif á það hvernig fólk líti almennt á minnihlutahópa í samfélaginu. „Fyrirsagnir í fjölmiðlum eða það sem pólitíkusar segja hefur mikil áhrif á skoðanir fólks. Ef einhverjir hátt settir í samfélaginu tala niður til ákveðins

hóps af fólki gefur það til kynna að það sé bara í lagi að gera það. Fréttamenn reyna líka oft að koma trúnni að þó hún skipti ekki máli. Ef ég myndi gera eitthvað af mér sem færi í fjölmiðla, hvort yrði fyrirsögnin; „Ung kona…“ eða „Ung, múslimsk kona…“? En svo hins vegar, ef einhver kristin, ung kona myndi gera eitthvað af sér væri hún bara talin eitthvað veik á geði vegna slæmrar æsku og titluð þannig í fjölmiðlum. Ef einhver pólitíkus á Íslandi myndi tala opinlega niður til samkynhneigðra yrði það aldrei leyft. Það myndi aldrei komast í gegn í okkar samfélagi. En samt einhvern veginn finnst sumu fólki í lagi að tala niður til innflytjenda, þó þeir hafi svo margt upp á að bjóða. Það þarf fólk alls staðar,“ segir Azra.

Kommentakerfin full af fordómum

Hún benti blaðamanni Víkurfrétta á grein sem hún hafði lesið fyrir stuttu sem fjallaði um það að meirihluti þeirra sem krafist væri gæsluvarðhalds yfir í Kaupmannahöfn væru útlendingar. „Af hverju er þetta frétt? Þetta yrði aldrei fréttnæmt ef um væri að ræða Dani í Kaupmannahöfn. Það er líka alveg örugglega hægt að sjá fjöldann allan af athugasemdum tengdar þessari grein frá fólki sem tekur undir þessa fordóma gagnvart útlendingum og þar er bókað ein athugasemd frá Sigurði, búsettum í Kaupmannahöfn, sem vill sko ekki

Fyrir stuttu síðan var Azra að skemmta sér ásamt vinkonum sínum þar sem þær kynntust hópi af strákum frá Bandaríkjunum. Þegar einn þeirra spurði Özru hvort hún vildi ekki kíkja til Bandaríkjanna á næstunni svaraði hún því að hún hefði ekki áhuga á því sökum allra fordómanna sem múslimar í Bandaríkjunum verða fyrir þessa dagana vegna áróðurs forseta landsins og sagði stráknum að hún sjálf væri múslimi. „Hann bað mig bara vinsamlegast að vera ekki að ræða þetta við þá og að vera ekki að byrja með einhver leiðindi því vinir hans væru stuðningsmenn Donald Trump. Ég sætti mig bara við það. Ég nenni ekki að þurfa að rífast við einhvern fyrir það að vera sú sem ég er.“

Bjargar ekki heiminum á einni nóttu

Hún segir það oft vera betra að þegja heldur en að tjá sig um þessi mál. „Því miður er það bara svoleiðis. Þetta kemur líka oft frá einhverjum einstaklingum sem þú þekkir ekki og þá er þetta bara ekki þess virði. Það er svo leiðinlegt að upplifa að eitthvað sé ekki þess virði þegar það er baráttumál fyrir þig. Stundum þarf maður bara að hugsa um geðheilsuna sína og stíga til hliðar. Ég get ekki bjargað heiminum á einni nóttu. En ég hvet fólk til þess að skoða þetta með gagnrýnni hugsun, skoða hvað sé í gangi í heiminum. Því þegar þú lítur á þetta allt saman með opnum hug þá sérðu alla þessa klikkun sem er í gangi.“ Aðspurð út í það hvað Azra myndi segja við þá sem vitna í Kóraninn, sér til stuðnings, um að múslimsk trú sé slæm svarar hún blaðamanni fullum hálsi: „Einmitt, hvað segir Biblían?“


SPENNANDI TÆKIFÆRI Í GRUNNSKÓLUM REYKJANESBÆJAR Við erum að leita að fólki sem vill vera með í að byggja upp skólasamfélag í fremstu röð þar sem metnaður, kraftur og samheldni eru lykilatriði. Í Reykjanesbæ eru sex grunnskólar sem hver og einn hefur á að skipa samstilltum starfsmannahópi með skýra sýn á framtíðina.

AKURSKÓLI er kraftmikill og framsækinn skóli. Hann starfar

eftir einkunnarorðunum börn eru gleðigjafar, skapandi og fróðleiksfús. Frá næsta skólaári vantar okkur liðsauka í skólann. • Deildarstjóri yfir starfsstöð – millistjórnandi með mannaforráð auk kennslu • Kennarar – sérkennsla, tónmenntarkennsla, heimilisfræðikennsla, íþróttakennsla, umsjónarkennsla á yngsta- og miðstigi • Skólaritari í afleysingu vegna fæðingarorlofs • Umsjónarmaður frístundaskóla – 50% starf • Umsjón með kaffistofu starfsmanna • Skólaliðar – 50%-80% störf Á heimasíðu Akurskóla má lesa nánar um stefnu skólans og starfsemi www.akurskoli.is

NJARÐVÍKURSKÓLI starfar undir kjörorðunum

menntun og mannrækt en skólinn er umhverfisvænn og leggur áherslu á lestrarnám upp allan grunnskólann. Næsta vetur eru nokkur laus störf í skólanum. • Umsjónarkennsla á yngra stigi • Tónmenntakennsla • Sérkennara í sérdeild Nánar má lesa um Njarðvíkurskóla á heimasíðunni www.njardvikurskoli.is

HEIÐARSKÓLI styðst við einkunnarorðin háttvísi, hugvit

og heilbrigði. Skólinn kennir sig við Uppbyggingarstefnuna og er Uppbyggingarskóli. Næsta vetur ætlar Heiðarskóli að bæta við sig kennurum. • Kennsla á unglingastigi • Umsjónarkennsla á yngsta stigi • Umsjónarkennsla á miðstigi Nánari upplýsingar um Heiðarskóla er að finna á www.heidarskoli.is

HÁALEITISSKÓLI hefur kjörorðin menntun og mann-

rækt. Þar eru nemendur sem eiga heima á Ásbrú við nám í 1.-8. bekk. Nokkrar lausar stöður eru í Háaleitisskóla næsta vetur. • Kennari í textílmennt • Kennari á yngsta stig • Starfsmenn í frístund • Stuðningsfulltrúar Meira um Háaleitisskóla er að finna á heimsíðu skólans www.haaleitisskoli.is

MYLLUBAKKASKÓLI

er í hjarta bæjarins og starfar undir einkennisorðunum virðing, ábyrgð, jafnrétti og árangur. Kennara vantar á næsta skólaári. • Kennari í dönsku • Kennari í náttúrugreinum og íslensku á unglingastigi • Kennari á miðstigi. Nánari upplýsingar www.myllubakkaskoli.is Reykjanesbær er fimmta stærsta sveitarfélag landsins með um 16 þúsund íbúa. Í bænum eru einnig starfræktir tíu leikskólar, framúrskarandi tónlistarskóli og öflugt íþrótta- og tómstundastarf. Hjá Reykjanesbæ starfar samhentur hópur starfsmanna sem hefur það að leiðarljósi að þjónusta við íbúa bæjarfélagsins sé eins og best verður á kosið hverju sinni. Við bjóðum góða starfsaðstöðu, jákvætt andrúmsloft og samstarfsfólk sem tekur áskorunum hvers dags af eldmóði og krafti. Við ráðningar er ávallt höfð hliðsjón af jafnréttisáætlun Reykjanesbæjar. Sækja skal um störfin á vefsíðu sveitarfélagsins www.reykjanesbaer.is


ÍSLENSKT lambakjöt

3.998 kr. kg

3.198 kr. kg

Íslandslamb Lambafillet Uppþítt

Íslandslamb Lambaprime Uppþítt

ÍSLENSKT Grísakjöt

1.359 kr. kg

1.298 kr. kg

Íslandslamb Lambalæri Ferskt, kryddað

Íslandslamb Lambalæri Ferskt

Grísakjöt af

NÝSLÁTRUÐU

1.298 kr. kg

1.398 kr. kg

Bónus Grísakótilettur Ferskar, kryddaðar

Bónus Hamborgarhryggur Með beini

EKKERT

BRUDL

ÍSLENSKT

698 kr. kg

Ali Grísabógur Ferskur

skilar til viðskiptavina ólöglegri gjaldtöku ríkisins við útboð á kvóta til innflutnings á kjöti.

Ungnautakjöt

3.998 kr. kg

3.998 kr. kg

Íslandsnaut Ungnauta Ribeye, ferskt

Íslandsnaut Ungnauta Fillet, ferskt

198 kr. 75 g

198 kr. 100 g

198

Bónus Klettasalat 75 g

Bónus Frise Kálblanda 100 g

Bónus Spínat 100 g

kr. 100 g

Verð gildir til og með 16. apríl eða meðan birgðir endast

3.198 kr. kg

998 kr. kg

Nautalundir Þýskaland, frosnar

Veislufugl Með fyllingu, ferskur


U

GLEÐILEGA PÁSKA OPNUNARTÍMI Þriðjudagur Miðvikudagur Skírdagur Föstudagurinn langi Laugardagur Páskadagur Annar í páskum

11. apríl 12. apríl 13. apríl 14. apríl 15. apríl 16. apríl 17. apríl

kl. 11-19 kl. 10-20 kl. 10-19 LOKAÐ kl. 10-19 LOKAÐ kl. 12-18

PÁSKAEGGIN

ÓDÝRUSTU

1kg

PÁSKAEGGIN Í BÓNUS

Nr. 3

598 kr. 170 g

Nr. 4

998 kr. 315 g

Nr. 5 1.298 kr. 420 g

Nr. 6 1.598 kr. 520 g

RISAEGG

2.598 kr. 1 kg

SAMA VERd

um land allt


10

VÍKURFRÉTTIR

HEIMA HJÁ SUÐURNESJAFÓLKI:

MYNDARLEGT

HÚS VIÐ

MÁNAGÖTU Það er einstaklega reisulegt húsið á Mánagötunni þar sem listakonan Sossa Björnsdóttir og Ólafur Jón Arnbjörnsson skólastjóri hafa hreiðrað um sig. Hjónin keyptu húsið fremur óvænt árið 1995 en þau eru þriðju eigendur af því. Eignin, sem er 63 ára gömul, hefur gengið í gegnum þó nokkrar breytingar og enn er verið að betrumbæta. Falleg listaverk einkenna húsið en í stofunni er einstakt parket og stórfenglegur gluggi með milljón dollara útsýni. Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is

Ungu hjónin voru að leitast eftir hæð eða íbúð í ákveðnum radíus frá æskuslóðum sínum í Keflavík en þau voru þá að flytjast frá Egilsstöðum á þessum tíma. Sossa er alin upp á Skólavegi 28 og Óli á Hafnagötu 36. „Við hittumst þá á miðri leið hérna á Mánagötunni,“ segir Óli en staðsetningin er góð í rólegri einstefnugötu. Guðrún gamla sem átti húsið vildi ekki selja hverjum sem er. „Við klæddum okkur upp áður en við fórum að hitta hana,“ segir Sossa. Upphaflega stóð til að kaupa bara hæðina og risið. Að lokum fór það svo að þau keyptu kjallarann líka enda leist gömlu konunni vel á skötuhjúin. Ástandið á húsinu var ekki gott og þau þurftu að ráðast fljótlega í framkvæmdir. Húsið er byggt árið 1954 af Einari Norðfjörð, en hann byggði það fyrir sjálfan sig og bjó í því um skeið. Seinna seldi hann hjónunum sem bjuggu þarna á undan Sossu og Óla. Þau eru því þriðju eigendur af húsinu. Veggir voru brotnir niður og herbergisskipan breytt á miðhæð. Búið er að skipta um alla glugga nema einn en þau hafa unnið að endurbótum smátt og smátt í gegnum árin. Óli sá sjálfur um að smíða alla gluggana. Sossa viðurkennir að karlinn geti verið nokkuð handlaginn.

Einstakt eldhús

Eldhúsinnréttingin er algjörlega einstök en hún er hönnuð í gömlum stíl með halla á efri skápum og innbyggðum rekkum fyrir matardiska. Eyjan vakti nokkra athygli á sínum tíma en þetta þótti ekki jafn móðins árið 1995. „Hérna sitjum við, drekkum kaffi og borðum og tökum á móti gestum,“ segir Sossa. Matarboðin fara fram í bjartri borðstofunni. Stólarnir við stofuborðið fylgdu húsinu. Þau bólstruðu þá en áður var einhvers konar plast á þeim. „Þetta er örugglega eitthvað af Vellinum frá

um 1950, svona Mánabarslegt“, segir Óli. Stólarnir voru fimm talsins en sjötti stólinn kom óvænt í leitirnar. Vinahjón þeirra voru þá á rúntinum í Garðinum og sáu sams konar stól í vigtarhúsinu við bryggjuna. „Ég fór á fund Magga bæjarstjóra og bauð honum stólaskipti. Hann stóð strax upp og bauð mér sinn stól og sagði að hann hefði alltaf langað að vera skólameistari,“ segir Óli og þau hlæja bæði.

Deila endalaust um gólfdúkinn

Gamall gólfdúkur er helsta þrætuepli þeirra hjóna. Dúkurinn liggur upp stigann og upp í risið. Óli er ákaflega hrifinn af dúknum á meðan Sossa vill ekki sjá hann. Blaðamaður hefur á orði að hann sé nú frekar skólalegur dúkurinn. „Það er kannski málið,“ segir Óli þá hugsi. Húsinu fylgdi bílskúr sem var ekki mikið notaður áður en þar er Sossa með vinnustofu sína. Viðbyggingin við skúrinn er falleg en hún er byggð í kringum aldarmótin síðustu. Þar er frábær birta fyrir listamanninn. „Mér finnst það nauðsynlegt að fara út úr húsi til þess að fara í vinnuna. Helst að smyrja nesti og fara út til þess að vinna,“ segir Sossa sem þarf að taka nokkur skref frá útidyrunum til þess að koma sér í vinnu sína.

miðvikudagur 12. apríl 2017


miðvikudagur 12. apríl 2017

Húsið er vel byggt og virðulegt. Það stendur hátt og er gott útsýni yfir púttvöllinn á Mánagrund. Glugginn í stofunni er einkenni hússins og gefur því mikinn sjarma

Lagt var fallegt stafaparket á miðhæðina og var það sérstaklega teiknað upp af hönnuði, enda er það lagt á einstakan hátt. Þarna má svo sjá stólinn sem kom seint í leitirnar.

11

VÍKURFRÉTTIR

Eins og gefur að skilja má finna áhugaverð listaverk um allt hús.Verk eftir Sossu má sjá víða á veggjunum en meðal annarra listamanna eru Stórval og Sólon Íslandus (Sölvi Helgason), Tolli og Kjarval.

Eldhúsið er tímalaust og sérsmíðað listaverk. Hjónin hafa gaman af því að elda og þegar blaðamaður heimsótti Sossu á föstudegi var hún í óðaönn að undirbúa marrokóska veislu fyrir einginmanninn, en þau elda fyrir hvort annað á hverjum föstudegi.

Á vinnustofunni er frábær birta og mikil lofthæð. Finnur Björgvinsson hannaði bygginguna. Loftglugginn á vinnustofunni er mikið þarfaþing fyrir listamanninn Sossu. Hann tryggir frábæra birtu nánast sama hvernig viðrar.


12

VÍKURFRÉTTIR

Vorhátíð eldri borgara á Suðurnesjum

verður haldin Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 20. apríl, kl.15:00 
í Gjánni við Austurveg 3 í Grindavík (sambyggt Íþróttahúsi & sundlaug).

Kvenfélag Grindavíkur sér um veitingar og Suðurnesjamenn og heimamenn 
 um tónlist og skemmtun. Gjald er kr. 2000,Ath! enginn posi á staðnum. Allir félagar á Suðurnesjum velkomnir!

miðvikudagur 12. apríl 2017

Starfshlaupið var grænt í ár ■■Í síðustu viku fór fram 22. starfshlaup Fjölbrautaskóla Suðurnesja en keppnin hefur verið fastur liður í starfi skólans síðan árið 1994. Í ár kepptu fimm lið í hlaupinu og bar Græna liðið sigur úr býtum eftir ansi spennandi keppni. Appelsínugula liðið endaði rétt á eftir því Græna og Gula liðið lenti í því þriðja. Græna liðið hlaut því Starfshlaupsbikarinn og pítsuveislu í verðlaun. Í hverju liði eru nokkrir tugir keppenda sem keppa í ýmsum þrautum og safna stigum. Fyrir hverju liði fara nokkrir fyrirliðar sem koma úr hópi væntanlegra útskriftarnemenda. Umsjónarmenn Starfshlaupsins eru íþróttakennararnir Kristjana Hildur Gunnarsdóttir og Andrés Þórarinn Eyjólfsson.

ATVINNA

TÆKNIVÍK EHF ÓSKAR EFTIR RAFVIRKJA OG EÐA RAFVIRKJANEMA Í VINNU. Fyrirtækið er leiðandi í stýringum og forritun fyrir fiskeldi. Starfið felst í uppsetningu á töflum, stýringum og allri almennri raflagnavinnu. Einnig óskum við eftir starfsmanni á verkstæði okkar og við vinnu á uppsetningu búnaðar. Upplýsingar í síma 895 3556 eða á netfangið gulli@eldi.is

Tæknivík

SÉRFRÆÐINGUR ÓSKAST Í LAUNADEILD BÆJARINS Launadeild Reykjanesbæjar sér um launagreiðslur, greiningar, ráðgjöf við stjórnendur og starfsmenn, auk annarra verkefna tengdum kjaramálum sveitarfélagsins. Í deildinni starfa tveir sérfræðingar auk deildarstjóra. Aðsetur launadeildar er í Ráðhúsinu við Tjarnargötu.

Helstu verkefni:

• Launaútreikningur • Skráning og yfirferð ráðningar- og launagagna • Upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsmanna vegna útborgunar launa • Úteikningur á kjörum og réttindum starfsmanna skv. kjarasamningum • Samskipti við starfsmenn, lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila

Menntunar- og hæfniskröfur:

• Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Þekking og reynsla af launavinnslu og launabókhaldi • Þekking og reynsla á Navision launakerfi, á H3 launaog mannauðskerfi og Vinnstund æskileg • Þekking á kjarasamningum og lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna • Góð tölvukunnátta, færni í excel áskilin • Skipulagshæfni og samskiptahæfileikar

Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2017. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.Launakjör eru skv. kjarasamningi launanefndar sveitar-félaga og viðkomandi stéttarfélags. Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf. Nánari upplýsingar veita Iðunn Kr. Grétarsdóttir deildarstjóri launadeilar, idunn.k.gretarsdottir@reykjanesbaer.is og Þórey I. Guðmundsdóttir sviðsstjóri Fjármálasviðs, thorey. i.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is.

UNGA FÓLKIÐ UM GJALDFRJÁLSA SÁLFRÆÐIÞJÓNUSTU Þóra Lind Halldórsdóttir:

„Andlega hliðin er ekki síður mikilvæg en sú líkamlega og því ætti gjaldfrjáls sálf ræðiþjónusta að vera sjálfsagt mál. Það ætti ekki að vera neinn munur á því að fara í almenna heilsufarsskoðun reglulega eða að fara í sálfræðitíma. Að tala um líðan sína við fagaðila er hollt og nauðsynlegt fyrir alla, sama á hvaða aldri eða hvar þú ert staddur í lífinu og því ætti fólk ekki að þurfa að hafa áhyggjur af kostnaði þegar það kemur að þeim málum. Gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta myndi bæta samfélagið til muna.“

Brynja Ýr Júlíusdóttir:

„Mér finnst sjálfsagt að boðið sé upp á gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu. Allt of margir í dag glíma við einhver andleg veikindi og

þurfa nauðsynlega hjálp, en þurfa að borga svo mikið fyrir sálfræðiþjónustu sem langflestir hafa ekki efni á. Gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta myndi gera það að verkum að fleiri myndu leita sér hjálpar og þá væri mikið auðveldara að kljást við veikindin sín. Þannig ég er algjörlega á því að sálfræðiþjónusta ætti að vera gjaldfrjáls.“

Þórhallur Arnar Vilbergsson:

„Sálfræðiþjónusta á alltaf að vera fyrsti k o s tu r á u n d a n lyfjameðferð. Sálfræðingur getur komist að rót vandans og unnið úr meininu á huglægan hátt. Fólk hefur almennt ekki efni á því að fara til sálfræðings vegna mikils kostnaðar og þar af leiðandi verður lyfjameðferðin, því miður, eina leiðin til betrunar. Gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta væri að mínu mati mjög skynsamleg fyrir allt þjóðfélagið.“

Á besta tíma! kl. 20:00 og 22:00

Lumar þú á ábendingu um áhugavert efni í þáttinn? Sendu okkur línu á vf@vf.is

Alexander Hauksson

„Flest þurfum við að nýta okkur heilbrigðisþjónustu einhvern tíma á ævinni, hvort sem það er vegna andlegra eða líkamlegra veikinda. Heilsa er grundvallaratriði fyrir gott og hamingjusamt líf og því mikilvægt að aðgengi að heilbrigðisþjónustu standi öllum til boða, óháð tekjum, aldri, kyni eða uppruna. Nú þegar mikil aukning er á fólki sem greinist með kvíða, þunglyndi eða önnur geðtengd vandamál hefur þörfin fyrir gjaldfrjálsa geðheilbrigðisþjónustu orðið háværari krafa í þjóðfélaginu. Einnig er það skammarlegt að fólk sem þjáist af langvinnum veikindum þurfi oftar en ekki að eyða öllum sínum peningum til margra ára í heilbrigðisþjónustu. Á meðan skattar eru eins háir og þeir eru finnst mér sjálfsagt mál að málum verði forgangsraðað á þann hátt að grunnstoðir samfélagsins skipti mestu máli.“

Nýr sýningartími

á fimmtudagskvöldum á Hringbraut. Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00. Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18. Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22. Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.


miðvikudagur 12. apríl 2017

13

VÍKURFRÉTTIR

ATVINNA

Við hjá Ungó leitum að starfsmanni, 18 ára eða eldri, í vaktavinnu 2-2-3. Kvöld og helgarvinna.

Dýrin í Hálsaskógi sett á svið í Sandgerði ●●Sviðsmynd smíðuð frá grunni og hátt í 200 búningar saumaðir ■■Árshátíð Grunnskólans í Sandgerði fór fram síðasta fimmtudag, 6. apríl. Elstu nemendur leikskólans Sólborgar ásamt nemendum úr 1. til 6. bekk grunnskólans settu leikritið Dýrin í Hálsaskógi á svið. Þeir voru með tvær sýningar og í tilkynningu frá skólanum segir að gestir hafi verið á einu máli um að einstaklega vel hafi tekist til. Nemendur lögðu allt í sýninguna og hafa stundað stífar söng- og leikæfingar undanfarnar vikur. Þá var mikil vinna lögð í að gera umgjörð leiksýningarinnar sem glæsilegasta. Leikmyndin var sérsmíðuð frá grunni og saumaðir voru hátt í 200 búningar. Húshljómsveitin sá um flutning tónlistar en hún samanstendur af kennurum grunn- og tónlistarskólans. Árshátíð eldri nemenda fór svo fram um kvöldið og var hver bekkur með sitt atriði. Meðal efnis á dagskránni var kennaragrín þar sem nemendur í 7. bekk gerðu grín að kennurum skólans. Starfsmenn grunnskólans létu ekki sitt eftir liggja og fluttu nemendum 10. bekkjar kveðjusöng í Eurovision-stíl. Dagskránni lauk með rósaafhendingu og þá tók við ball fram undir miðnætti.

Í starfinu felst að vinna við matvæli , ís, þrif og almenna afgreiðslu. Ertu dugleg/ur, jákvæð/ur, ábyrg/ur og rösk/ur?

Endilega komdu og sæktu um hjá okkur! Upplýsingar á staðnum.

Ísbúð - Grill - Pizza Hafnargötu 6a, 230 Reykjanesbæ // Sími 421-1544

Aðalfundur Rafiðnaðarfélags Suðurnesja verður haldinn miðvikudaginn 19. apríl 2017 kl. 20:00 í sal Verslunarmannafélags Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin

Gleðilega páska Afgreiðslutímar um páskana Skírdagur 13. apríl: opið 12:00–16:00 Föstudagurinn langi 14. apríl: lokað Laugardagur 15. apríl: opið 10:00–16:00 Páskadagur 16. apríl: lokað Annar í páskum 17. apríl: opið 12:00–16:00 Netverslunin er opin allan sólarhringinn

Lyfja, Krossmóum 4, 260 Reykjanesbæ

lyfja.is


14

VÍKURFRÉTTIR

Úlfatíma lýkur Sunnudagurinn 23. apríl er síðasti sýningardagur sýningarinnar ÚLFATÍMI í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duus Safnahúsum. Þar eru sýnd verk systranna Söru og Svanhildar Vilbergsdætra og hefur sýningin hlotið mjög góðar viðtökur. Titill sýningarinnar er sóttur í smiðju sænska kvikmyndaleikstjórans Ingmar Bergman sem talaði um Úlfatímann sem tímann milli nætur og dagrenningar, þegar flestir deyja, svefninn sé hvað dýpstur og martraðir sem

raunverulegastar. Þá sæki mestur ótti að þeim sem ekki geti sofið og bæði draugar og drýsildjöflar fara mikinn. Þær systur eru þekktar fyrir litskrúðug verk sín sem segja endalausar sögur, bæði þessa heims og annars og nú bregður við nýjum tóni sem ekki hefur sést áður. Sara og Svanhildur mála sem fyrr saman, sömu verkin og á sýningunni Úlfatími má sjá 20 olíuverk sem flest eru ný og hafa ekki sést áður. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.

AÐALFUNDUR Aðalfundur Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis verður haldinn í Krossmóa 4, 5. hæð, þriðjudaginn 25. apríl 2017 kl. 20.00. Dagskrá • Venjuleg aðalfundarstörf. • Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs. • Kosning 18 fulltrúa VSFK á ársfund Festu- lífeyrissjóðs 9. maí nk. • Önnur mál.

miðvikudagur 12. apríl 2017

Sandgerðingar sigursælir í Teiknisamkeppni MS Kringa Viktoría Jarosz og Laufey Arnberg Óðinsdóttir, nemendur í 4. bekk í Grunnskólanum í Sandgerði, voru meðal þeirra tíu unnu til verðlauna í Teiknisamkeppni MS. Keppnin var haldin í tengslum við Alþjóðlega skólamjólkurdaginn. Rúmlega 1.300 myndir bárust frá 4. bekkingum í 70 skólum alls staðar að á landinu. Tíu myndir voru valdar og höfundum þeirra veittar viðurkenningar fyrir teikningar sínar og til viðbótar var hver mynd verðlaunuð með 40.000 króna peningagjöf frá Mjólkursamsölunni, sem rennur óskipt í bekkjarsjóð viðkomandi og getur bekkurinn nýtt þá upphæð í að gera sér glaðan dag saman og efla liðsheild. Í tilkynningu frá Mjólkursamsölunni segir að myndefnið sé frjálst en megi gjarnan tengjast mjólk, hollustu og heilbrigði. Kýr eru alltaf vinsælt myndefni, sem og fernurnar sjálfar og flutningabílarnir.

Laufey Arnberg Óðinsdóttir og Kringa Viktoría Jarosz með viðurkenningar sínar.

Guðbrandur verður frístunda-, menningar- og lýðheilsufulltrúi Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs hefur samþykkt starfslýsingu og starfsheiti „Frístunda-, menningar-og lýðheilsufulltrúa“ sveitarfélagsins. Fyrra starfsheiti var „Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi“, sem Guðbrandur J. Stefánsson hefur haft með höndum undanfarin ár. Sú breyting varð á starfinu um síðustu áramót að verkefni í þágu Knattspyrnufélagsins Víðis færðust frá íþrótta-og æskulýðsfulltrúa til félagsins. Með því skapaðist svigrúm til þess að fela íþrótta-og æskulýðsfulltrúa verkefni á sviði menningarmála,

Kaffiveitingar verða á fundinum. Félagar fjölmennum! Stjórnin

en undanfarin ár hefur enginn starfsmaður sveitarfélagsins haldið sérstaklega utan um menningarmálin. Skírskotun til lýðheilsu í starfsheitinu á meðal annars við um verkefni á sviði íþrótta, forvarna og æskulýðsmála almennt, auk þess sem um er að ræða félags- og tómstundastarf eldra fólks og öryrkja. Það er nýjung að vísa til lýðheilsu í slíku starfsheiti hjá sveitarfélaginu, en þess má geta að um þessar mundir eru sveitarfélög meðal annars að fjalla um og vinna að ýmsum þáttum varðandi lýðheilsu almennt.

Lagardère Travel Retail ehf. sér um rekstur veitingastaða og sælkeraverslunar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Markmið fyrirtækisins er að bjóða framúrskarandi þjónustu í lifandi og alþjóðlegu starfsumhverfi.

Leitum að framtakssömu og duglegu starfsfólki til að vinna hjá Lagardére Travel Retail ehf. í spennandi og krefjandi umhverfi en Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur þrisvar sinnum undanfarin ár verið talin besta flugstöð Evrópu í sínum stærðarflokki. Störf í boði • Vaktstjórastöður • Lager • Matreiðsla • Afgreiðsla • Aðstoð í eldhúsi • Aðstoð í sal • Uppvask Við bjóðum upp á framtíðarstörf og sumarstörf, fjölbreyttar vaktir, sveigjanlegan vinnutíma og rútuferðir frá Stór-Reykjavíkursvæðinu. Við hvetjum fólk á öllum aldri til að sækja um inn á www.ltr.is eða senda umsókn á umsokn@ltr.is


miðvikudagur 12. apríl 2017

15

VÍKURFRÉTTIR

Hljómlist án landamæra í Hljómahöll Fimmtudaginn 20. apríl, á sumardaginn fyrsta klukkan 20:00, fara fram einstakir tónleikar í Hljómahöll í Reykjanesbæ sem bera nafnið „Hljómlist án landamæra“. Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða viðburð í tengslum við listahátíðina „List án landamæra“ sem notið hefur verðskuldaða athygli á landsvísu á undanförnum árum. Sérkenni og jafnframt helsti styrkleiki hátíðarinnar er að þar gefst öllum sem áhuga hafa, tækifæri á að koma listsköpun sinni á framfæri og fagna fjölbreytileika mannlífsins. Tónleikarnir voru haldnir í fyrsta sinn í fyrra og þá var troðfullur Stapi og frábær stemmning og ljóst að ekki er við öðru að búast í ár. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum, Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum og Listar án landamæra. Á tónleikunum koma fram fatlaðir og ófatlaðir tónlistarmenn frá Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og Akranesi. Fram koma Salka Sól og Embla Sól Björgvinsdóttir, Salka Sól og Davíð

Már Guðmundsson við undirleik Rokksveitarinnar, Vox Felix undir stjórn Arnórs Vilbergssonar og Lára Ingimundardóttir, Sönghópurinn Gimsteinar, Karitas Harpa Davíðsdóttir, sigurvegari Voice 2017, og Kristín Þóra Albertsdóttir við undirleik Tómasar Guðmundssonar og Baggabandið ásamt Evu Dögg Héðinsdóttur, Frey Karlssyni, Heiðrúnu Hermannsdóttur, Jóni Agnarssyni og Stefáni Trausta Rafnssyni. Einnig kemur fram danshópur frá Danskompaní. Kynnar á tónleikunum verða frábæru skemmtikraftarnir Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói og Hallgrímur Ólafsson. Aðgangur er ókeypis og vonast aðstandendur til þess að sem flestir sjái sér fært að mæta og berja okkar frábæru listamenn augum. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja. Nánari upplýsingar er að finna á facebooksíðu verkefnisins: facebook. com/Hljomlistanlandamaera

SKÍRDAGSKVÖLD KL. 20:00 Séra Erla þjónar fyrir altari í friðsælli messu þar sem kyrrð verður sótt í gegnum bæn og altarissakramenti. Taizesálmar sungnir af kórfélögum undir stjórn Arnórs organista. Messuþjónarnir Ólöf og Kristinn Þór afskrýða altarið, hylja það svörtum klæðum og leggja á það fimm rauðar rósir sem tákna sár Krists. FÖSTUDAGURINN LANGI KL. 14 :00 verður rósunum langur og til fjörtjóns. Sr. Eva Björk þjónar við messu þennan dag er kristin kirkja um allan heim les píslasöguna og minnist pínu og dauða Jesú Krists. Kórfélagar syngja sálma föstudagsins langa og Arnór organisti er þeirra stjórnandi. Linda Gunnarsdóttir er messuþjónn. PÁSKADAGUR KL. 09:00 Rósir á altari eru tákn elskunnar sem er tilefni hátíðarguðsþjónustu að morgni upprisudags. Sr. Erla og Eva Björk þjóna báðar við gleðistund og Kór Keflavíkurkirkju syngur stjórn Arnórs organista. Kaffi á könnu, ný rúnstykki og sérbökuð í Kirkjulundi að lokinni messu. Helga Jakobsdóttir og Þórey Eyþórsdóttir eru messuþjónar. Hjúkrunarheimilin á páskadag Helgistund á Nesvöllum kl.10:30 og Hlévangi kl. 11:00. Í samfélgai við eldri kynslóðina flytur sr. Erla hugleiðingu og félagar í kór Keflavíkurkirkju syngja ásamt Arnóri organista.

Í B ÍL NU M

DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.

SUÐURNES - REYK JAVÍK SÍMI: 845 0900

Nýr sýningartími

Lumar þú á ábendingu um áhugavert efni í þáttinn? Sendu okkur línu á vf@vf.is

á fimmtudagskvöldum á Hringbraut. Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00. Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18. Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22. Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.

Ársfundur 2017

7.260 -3.288 3.256 -239 6.989 112.431 119.420

6.049 -3.057 10.261 -213 13.038 99.393 112.431

Fjárfestingar

52.176 65.874 0 118.050

50.240 60.908 25 111.173

Annað Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris

1.031 22 686 -369 1.370 119.420

916 28 401 -86 1.258 112.431

2,8% 0,5% 5,4% 0,7% -2,2% 1,0% -1,2% 4,4% 2,0%

10,5% 8,2% 5,7% 1,7% 0,5% 10,7% 8,4% 5,2% 3,0%

Efnahagsreikningur

Ýmsar kennitölur Nafnávöxtun Hrein raunávöxtun Hrein raunávöxtun 5 ára meðaltal Hrein raunávöxtun 10 ára meðaltal Tryggingafræðileg staða Nafnávöxtun séreignardeildar Hrein raunávöxtun séreignardeildar Hrein raunávöxtun séreignard. 5 ára meðaltal Hrein raunávöxtun séreignard. 10 ára meðaltal

Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

ALLTAF PLÁSS

kl. 20:00 og 22:00

2015 í milljónum króna

Annað Kröfur á launagreiðendur Aðrar kröfur Ýmsar eignir Viðskiptaskuldir

www.bilarogpartar.is

Á besta tíma!

2016 í milljónum króna

Fjárfestingar Eignahlutir í félögum og sjóðum Skuldabréf Aðrar fjárfestingar

sími 421 7979

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00

FINNDU OKKUR Á FACEBOOK

Afkoma Festu lífeyrissjóðs Iðgjöld Lífeyrir Hreinar fjárfestingatekjur Rekstrarkostnaður Breyting á hreinni til greiðslu lífeyris Hrein eign frá fyrra ári Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris

Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík

Verið velkomin

ANNAR Í PÁSKUM KL. 11:00 Sunnudagaskóli og páskaeggjaleit. Við hvetjum alla krakka, mömmur, pabba, ömmur og afa að koma og leita með okkur að páskaeggjum, sá á fund sem finnur! Að lokum verður börnunum færð bænabók að gjöf.

Sameinaður Lífeyrissjóður Suðurlands, Suðurnesja og Vesturlands

Breytingar á hreinni eign

Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir

Ársfundur Festu lífeyrissjóðs verður haldinn þriðjudaginn 9. maí nk. Fundarstaður: Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38. Fundarstörf hefjast kl. 18:00

Dagskrá ársfundar 2017:

1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins 3. Önnur mál, löglega upp borin

www.festa.is Stjórn Festu lífeyrissjóðs: Anna Halldórsdóttir, stjórnarformaður Garðar K. Vilhjálmsson, varaformaður Ólafur S. Magnússon, meðstjórnandi Dagbjört Hannesdóttir, meðstjórnandi Halldóra Sigr. Sveinsdóttir, meðstjórnandi Örvar Ólafsson, meðstjórnandi

Framkvæmdastjóri: Gylfi Jónasson

Traust - Ábyrgð - Festa


17 - 1112 - HVÍ TA HÚSI Ð / S Í A

V I LT Þ Ú V E R A H L U T I AF GÓÐU FERÐALAGI? Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið. Nú vantar okkur fleiri til að vera hluti af góðu ferðalagi með okkur. Við leitum að metnaðarfullu og öflugu starfsfólki til að taka þátt í þeim öra vexti sem er framundan á Keflavíkurflugvelli.

V E R K E F N A S T J Ó R I F R A M K VÆ M D A O G FJ Á R F E S T I N G AV E R K E F N A .

S U M A R S TA R F Á A Ð G A N G S S K R I F S T O F U FLUGDEILDAR

Helstu verkefni er verkstjórn og eftirlit með framkvæmda- og fjárfestingarverkefnum, umsjón með gerð verk-, kostnaðar- og framkvæmdaáætlana, umsjón með verkbókhaldi tengt framkvæmdum og greining á fjárfestingaverkefnum, sem og skýrslugerð, gagnasöfnun og úrvinnsla á sviði framkvæmda.

Helstu verkefni eru afgreiðsla og útgáfa aðgangsheimilda fyrir einstaklinga og ökutæki. Samskipti við flugvallarnotendur vegna aðgangsmála og við lögreglu vegna bakgrunnsskoðana og vöktunar. Starfsmaður mun einnig sjá um skjalavörslu og önnur tilfallandi verkefni í samráði við hópstjóra aðgangsskrifstofu.

• Rafmagns- eða tæknifræði er skilyrði

Hæfniskröfur:

Hæfniskröfur:

• Víðtæk reynsla af verkefnastjórnun í mannvirkjagerð

• Verk- eða tæknifræðimenntun er nauðsynleg

• Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði

• Reynsla eða menntun í fjármálum framkvæmda

• Góð þekking á Autocad, Revit og Microsoft Project

• Reynsla af verkefnum með hátt flækjustig

• Góð enskukunnátta í ræðu og riti

• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Umsóknarfrestur: 7. maí

• Rík þjónustulund

V E R K E F N ASTJ Ó R I R A F O R K U Helstu verkefni eru umsjón og ábyrgð á raforku framkvæmdaverkefna frá hönnun til reksturs, ásamt uppbyggingu dreifikerfa. Samræming rafhönnunar og samþykki útboða. Umsjón með öflun, móttöku og yfirferð tilboða og samningagerð við verktaka. Áhættustjórn verklegra framkvæmda og fleira. Hæfniskröfur:

Umsóknarfrestur: 23. apríl

Umsóknarfrestur: 7. maí

Isavia hlaut gullmerki PwC fyrir launajafnrétti í jafnlaunaúttekt PwC 2015 og 2016. Við erum stolt af þeirri niðurstöðu og er hún í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað.

STA R FS STÖ Ð : K E F L AV ÍK U RFL U G VÖ L L U R

(Excel, Outlook o.fl.)

UMSÓKNIR : ISAVIA.IS/AT VINNA


S U M A R S TA R F F Y R I R TÆ K N I N E M A Helstu verkefni eru að vinna við upplýsingalíkan (BIM) fyrir hönnun, framkvæmd og rekstur. 3D laser skanna alla flugstöðina og útbúa þannig 3D líkan af henni, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum. Hæfniskröfur: • Tækni- eða verkfræðinemi, þarf að hafa lokið 2 árum af B.Sc námi • Reynsla af landmælingum er kostur • Þekking og áhugi á BIM hönnun er kostur • Góð tölvukunnátta skilyrði • Góð enskukunnátta skilyrði Umsóknarfrestur: 23. apríl

F L Æ Ð I S STJ Ó R A R Í FA R A N G U R S OG FLOKKUNARSAL Helstu verkefni eru að tryggja skilvirkt flæði farangurs í gegnum farangurskerfið og að flæði í flokkunarsal sé í lagi. Almennt viðhald á farangurskerfi, eftirlit með starfssemi rekstraraðila, gagnasöfnun og úrvinnsla. Um er að ræða vaktavinnu. Hæfniskröfur: • Verkmenntun á sviði málm-, raf- eða véltækni er kostur • Tæknimenntun er kostur • Reynsla við vinnu á flugvelli er kostur • Reynsla af verkstýringu er kostur • Góð enskukunnátta skilyrði • Góð tölvukunnátta skilyrði Umsóknarfrestur: 23. apríl

S U M A R S TA R F F Y R I R VERKFRÆÐINEMA Helstu verkefni ganga öll út á að auka afköst núverandi flugstöðvar, styðja við aðrar deildir og mun starfsmaður kynnast öllum ferlum flugvallar. Nauðsynlegt er að starfsmaður hafi gott vald á tölulegri greiningu, tölfræði og líkindafræði. Hæfniskröfur: • Þarf að hafa lokið 2 árum af B.Sc í verkfræði eða skyldum greinum • Umsækjandi þarf að geta unnið sveigjanlega vinnutíma • Góð tölvukunnátta skilyrði

H Ö N N U Ð U R / TÆ K N I T E I K N A R I Helstu verkefni eru vinnsla á CAD teikningum, landupplýsingakerfi, uppsetning og ýmis teiknivinna sem og viðhald gagna sem tengjast gerð þróunaráætlunar, hönnun og framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli. Hæfniskröfur: • Tækniteiknun, arkitektúr eða menntun sem nýtist í starfi • Haldgóð þekking á helstu teikniforritum • Þekking á BIM aðferðafræðinni er kostur Umsóknarfrestur: 30. apríl

• Góð enskukunnátta skilyrði Umsóknarfrestur: 23. apríl

Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þá þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu, nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni og þurfa allir umsækjendur að vera með hreint sakavottorð.


18

VÍKURFRÉTTIR

miðvikudagur 12. apríl 2017 „Ég gat alveg séð það. Ég keypti mér hér íbúð en kennslan var ekki að gefa það vel að hún myndi duga ein og sér. Þeir íþróttakennarar sem ég þekki hafa yfirleitt verið í þjálfun með, það er nú bara því miður þannig.“

Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is

Það verður að teljast ansi merkilegur árangur að hafa þjálfað landslið Íslands og afreksfólk í sundi um árabil og vera rétt syndur sjálfur. Þannig mætti lýsa uppgangi Steindórs Gunnarssonar sem rambaði í starf sundþjálfara stuttu eftir að hann hóf störf í Njarðvíkurskóla fyrir rúmum 25 árum. Hann var þá blautur á bak við eyrun, nýlega útskrifaður sem íþróttakennari og nýfluttur úr sveitinni. Steindór, sem varð fimmtugur í febrúar, er sveitadrengur beint úr kartöflubænum Þykkvabæ. Þar ólst hann upp á bænum Vatnskoti þar sem foreldrar hans ræktuðu kartöflur og voru með lítinn búskap. Hann var áhugasamur um íþróttir frá unga aldri og var nothæfur í flestum greinum án þess þó að skara fram úr. Hann gekk í grunnskóla í Þykkvabæ og í gagnfræðaskóla á Hellu. Því næst lá leiðin á Laugarvatn þar sem hann ætlaði að láta ráðast hvað framtíðin bæri í skauti sér. Upphaflega hugsaði Steindór með sér að vera kokkur en hvarf fljótlega frá því. Á Laugarvatni var Steindór í sex ár. Fyrst kláraði hann menntaskólann og ákvað að honum loknum að læra til íþróttakennarans. „Ég hef alltaf haft gríðarlega mikinn áhuga á íþróttum og verið alæta á þær. Við fylgdumst til dæmis mikið með körfu og þar hélt ég einmitt með Njarðvíkingum,“ rifjar hann upp. Það hefur alltaf legið fyrir Steindóri að hreyfa sig og hann var mikið á ferðinni með krökkunum í sveitinni. Þar reyndi hann sér fyrir sér í frjálsum og lék sér í fótbolta á kvöldin. Í náminu reyndi á að geta stundað fjölbreyttar íþróttir í verklega hlutanum. Steindór segir að námið hafi orðið til þess að hann var opinn og jákvæður fyrir öllum íþróttum. „Minn sundgrunnur er ekki sérstakur. Ég man ennþá eftir fyrsta tímanum þar sem ég lærði flugsund, en í sveitaskólanum hafði ég aldrei prófað slíkt. Ég hafði aðallega lært bringusund og var hálfósyndur á skriðsundi. Það var mikið hlegið af því þegar við fengum að sjá myndband af okkur í flugsundinu, það var hálfgert djók.“ Steindór fór til Hólmavíkur og varð framkvæmdastjóri hjá héraðssambandinu þar ásamt því að þjálfa frjálsar íþróttir, þá 21 árs gamall. Þangað fór hann nokkur sumur þar sem hann spilaði einnig með og þjálfaði fótboltaliðið á svæðinu, Geisla, sem þá lék í fjórðu deild. Áður en Steindór dagaði upp í Njarðvík stoppaði hann stutt við á Snæfellsnesi og Hólmavík, þar sem hann var íþróttakennari og sinnti stundarkennslu. „Mér fannst höfða til mín að fara að kenna. Mig langaði að takast á við það. Ég á auðvelt með að tengjast fólki og ég á frekar gott með að stjórna fólki. Það hefur ekki reynst mér erfitt að halda aga í tímum. Ég ber þess ekki skaða,“ segir Steindór og brosir.

Bannað að kenna annað en körfubolta

Örlögin höguðu því þannig að Steindór endaði í Njarðvík en áður hafði hann sóst eftir starfi í Grindavík. Það gekk ekki eftir en Gylfi Guðmundsson, skólastjóri Njarðvíkurskóla, hafði spurnir af þessum unga manni sem leitaði að starfi á Suðurnesjum og vildi fá hann til Njarðvíkur. „Ég sé ekki eftir því í dag,“ segir Steindór sem er orðinn mikill Njarðvíkingur og stór hluti af samfélaginu í Reykjanesbæ. „Mér fannst þetta strax skemmtilegt samfélag. Ég fékk hérna eldskírn þegar Kristbjörn Albertsson bannaði mér að kenna aðrar íþróttir en körfubolta, það var þungi í orðum hans þannig að ég nýi maðurinn vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið. Þegar ég fór svo í íþróttahúsið og álpaðist þar inn á skónum, þá tók Imba mig á teppið,“ rifjar Steindór upp. „Mér var vel tekið hérna og var varla búinn að vera hérna í mánuð þegar téð Imba (Ingibjörg Þorsteinsdóttir) bað mig um að koma

Í Björkinni er Steindór með skrifstofu en þar er frístund á milli 2 og 4 á daginn. Þá fyllist húsið af ungum krökkum. „Ég þarf stundum að fara fram og fá mér kaffi og geng þá í gegnum krakkager. Þá heyri ég vanalega, „Þú kenndir pabba.“ Ég bíð bara eftir því að einhver segi að ég hafi kennt ömmu þeirra, þá fer þetta að verða gott kannski,“ segir Steindór og glottir. Hann segist vera mjög mannglöggur og man nánast öll nöfn fyrrum nemenda og þekkir jafnvel fjölskyldutengsl þeirra. Steindór saknar þess stundum að vera ekki íþróttasalnum og hitta þar fyrir alla nemendur skólans í íþróttakennslu, en nú kennir hann aðeins nemendum úr Björkinni íþróttir. „Mér finnst þetta algjör forréttindi. Fyrir það fyrsta að vera heill heilsu, það eru ekki allir sem ná því að verða fimmtugir. Líka það að sjá allt þetta fólk þroskast í kringum mann. Það er mjög gefandi og skemmtilegt.“

Ástríðan smitar út frá sér

SVEITASTRÁKURINN

SEM KUNNI EKKI

FLUGSUND ●●Steindór Gunnarsson hefur sinnt kennslu og þjálfun helming ævi sinnar

að þjálfa sund. Ég hafði frekar hugsað mér að þjálfa kannski fótbolta. Þarna var líka Friðrik Ólafsson sundþjálfari og þetta veitti mér innblástur til þess að takast á við þetta verkefni,“ en þessi áskorun sem ungi maðurinn tók að sér árið 1991 átti heldur betur eftir að breyta miklu í hans lífi. „Ég fékk fljótlega gríðarlega ástríðu fyrir sundinu. Þegar sundfólkið fór að ná árangri þá jókst hann. Sagan er mikil í íþróttinni hérna og þegar ég umgekkst Friðrik þá langaði mig að gera eins vel ef ekki betur en áður hafði verið.“ Fyrst um sinn var Steindór að þjálfa yngri iðkendur en fljótlega fóru Njarðvíkingar undir hans stjórn að láta að sér kveða. Á næstu árum bjó hann til það öflugt lið að árið 1996 var hann kjörinn þjálfari ársins. Eins og áður segir er Steindór ekki afreksmaður sjálfur í sundi eins og svo margir sem fara í afreksþjálfun í greininni. „Nánast allir þjálfarar sem ég þekki eru með grunn úr sundinu. Auðvitað fannst mörgum skrítið að ég væri kominn á þennan stað. Það hefur verið helgið að því lengi að þegar þjálfarar eru látnir keppa þá er ég lang lélegastur,“ segir sundþjálfarinn og hlær.

hegðunarerfiðleika sem yfirleitt dvelja tímabundið í deildinni. Steindór segir starfið mjög krefjandi en um leið mjög gefandi. Steindór kennir því ekki lengur íþróttir nema bara þeim örfáu nemendum sem eru í Björkinni hverju sinni. „Ég var til í að prufa þetta í eitt ár, að komast í kennslustofu. Svo hef ég bara ílengst þar. Það hentar ágætlega með þjálfun. Ég virðist vera fastheldinn á margt sem ég geri og endist í því sem ég tek mér fyrir hendur,“ segir Steindór.

Óttast að kenna barnabörnum fyrrum nemenda

Það eru aðeins tveir starfsmenn Njarðvíkurskóla með lengri starfsaldur en Steindór sem á 26 ára starfsafmæli innan skamms. Það eru Ásgerður Þor-

geirsdóttir skólastjóri og Guðjón Sigbjörnsson, fyrrum kennari, sem nú er gangavörður. „Það er hálf asnalegt að hugsa til þess hvað maður er búinn að vera hérna lengi. Ég ætla ekkert að hætta að kenna. Það er alls konar í skólaumhverfinu, kjarabarátta og annað sem er ekki spennandi en ég sé ekki fram á að hætta. Ég kann vel við þetta,“ segir Steindór sem þrífst á því að hafa nóg fyrir stafni. „Ég þekki orðið mjög marga hérna í samfélaginu. Það er eitt af því sem ég kann svo vel við í þessu bæjarfélagi.“ Blaðamaður vottar það en á leið sinni inn á kaffihúsið þar sem viðtalið fór fram heilsaði Steindór nokkrum fyrrum nemendum. Sástu það fyrir þér að ílengjast hér?

Árið 2010 tók Steindór sér frí frá afreksþjálfun en hún getur verið mjög krefjandi. „Ég fann enga löngun til þess að vera í þessu lengur. Ef þú hefur áhuga og ástríðu fyrir þessu þá smitar þú út frá þér. Ef þú ert hálfpartinn áhugasamur þá smitar það líka frá sér. Ég ákvað því að taka mér pásu og fór að þjálfa yngri krakka.“ Þegar afreksþjálfun er annars vegar þá hefur það áhrif á fjölskyldulífið. „Í mörg ár á maður bara tvær vikur í sumarfrí. Það tæmir aðeins út af batteríinu.“ Ári áður en komið var að tali við Steindór varðandi það að gerast aðalþjáfari ÍRB aftur, þá var hann kominn með löngun til þess að þjálfa aftur. Hann hafði þá jafnvel hugsað sér að reyna fyrir sér erlendis. Tímasetningin var ekki góð hvað það varðar og því tók hann fagnandi við gamla starfinu. Steindór hefur fengið fín tilboð í gegnum tíðina innan úr Reykjavík en hann hefur ekki langað til þess að reyna fyrir sér þar.

Samfélagið stolt af sundfólkinu

Í haust er Steindór búinn að þjálfa sund í 25 ár og ná glæsilegum árangri. „Ég held að samfélagið sé mjög stolt af þeim árangri sem sundfélagið hefur náð. Félög í Reykjavík hafa horft til okkar og hvernig við höldum á spöðunum. Við höfum til dæmis keppt á móti Reykjavíkur úrvali margsinnis og ekki átt í teljandi erfiðleikum með það.“ Í fleiri ár var vaninn hjá Steindóri að vakna fyrir sex á morgnana þar sem morgunæfingar eru stór hluti af íþróttinni. „Þau gerðu nú grín af mér foreldrar mínir. Ég var nefnilega erfiður unglingur þegar kom að því að koma mér fram úr.“ Þetta er ákveðinn lífstíll að sögn þjálfarans og jafnvel þegar hann tók sér frí frá þjálfun þá var erfitt að breyta út af vananum. Steindór hefur sjálfur orðið betri sundmaður með árunum en hann segist hafa lært mikið af því að standa á bakkanum í öll þessi ár. Hann sér ekki fyrir sér að hætta þjálfun né kennslu á næstunni enda á besta aldri.

Gefandi starf í Björkinni

Steindór kenndi eingöngu íþróttir í Njarðvíkurskóla til ársins 2002 en þá tók hann við sem deildarstjóri Bjarkarinnar í Njarðvíkurskóla. Björkin er ætluð nemendum í Reykjanesbæ með

Steindór er giftur Heiðrúnu Scheving Ingvarsdóttur og eiga þau þrjár dætur, Unni, Margréti og Júlíu. Þrátt fyrir að Steindór sé oft stóran part dags í vinnunum þá er það fjölskyldan sem er ávallt númer eitt, en hann segist vera mjög heimakær og finnst fátt skemmtilegra en að njóta lífsins með fjölskyldu og vinum.


miðvikudagur 12. apríl 2017

19

VÍKURFRÉTTIR

Steindór sæmdur gullmerki Steindór var á dögunum sæmdur gullmerki Sundsambands Íslands fyrir að vera óþreytandi í starfi sínu og fyrir að vera alltaf tilbúinn að veita hjálparhönd. Í kjölfarið rigndi yfir hann hamingjuóskum enda hefur hann snert líf fjölmargra í kennslu og starfi.

Steindór er sveitadrengur beint úr kartöflubænum Þykkvabæ. Þar ólst hann upp á bænum Vatnskoti þar sem foreldrar hans ræktuðu kartöflur og voru með lítinn búskap.

ÍÞRÓTTIR

Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is

KÖRFUBOLTASNILLINGUR

ENGIN ÆFING LEIÐINLEG Aldís Nanna Kristjánsdóttir er körfuboltasnillingur vikunnar hjá Víkurfréttum. Hún æfir af kappi enda ætlar hún sér alla leið í körfunni. Hún styður sitt fólk í Keflavík þar sem Hörður Axel og Emelía Ósk eru eftirlætis leikmenn hennar. Aldur og félag: 11 ára og æfi með Keflavík. Hvað æfir þú oft í viku? Ég æfi 9 sinnum í viku. Hvaða stöðu spilar þú? Ég spila allar stöður. Hver eru markmið þín í körfubolta? Að komast í meistaraflokk og landsliðið. Skemmtilegasta æfingin? 1 á 1 og skotæfingar.

Leiðilegasta æfingin? Engin æfing leiðinleg. Eftirlætis körfuboltamaður/ kona á Íslandi? Hörður Axel og Emelía Ósk. Eftirlætis körfuboltamaður/ kona í NBA? Stephen Curry. Lið í NBA? Golden State Warriors.

Grindvíkingar í úrslit ●●fylgja Keflvíkingar?

Grindvíkingar eru komnir í úrslit Domino’s deildar karla eftir að hafa sent Stjörnumenn í sumarfrí eftir 3-0 sigur í viðureign liðanna. Grindvíkingar fóru síðast í úrslit árið 2014 þar sem þeir töpuðu gegn KR 3-1. Grindvíkingum tókst eftirminnilega að landa Íslandsmeistaratitlinum árin 2012 og 2013. Það voru ekki margir sem reiknuðu með Grindvíkingum í úrslitum í ár og gerðu fæstir ráð fyrir því að þeir færu í gegnum Garðbæinga. Þjálfarinn Jóhann Ólafsson er á sínu öðru ári með Grindavíkurliðið en hann hefur með þessu komið sér framarlega í kapphlaupinu um þjálfara ársins. Grindvíkingar eru að spila ákaflega vel saman og eru lykilmenn sem aukaleikarar að leggja drjúgt í púkkið. Þeir eru til alls líklegir í úrslitum sama hverjir andstæðingarnir verða. Fjórði leikur Keflavíkur og KR í undanúrslitum karla fór fram í gærkvöldi þannig að annað hvort verður oddaleikur í Vesturbænum eða KR fara í úrslit en þeir leiða 2-1 þegar blaðið

fór í prentun. Keflvíkingar hafa ekki farið í úrslit síðan árið 2010 þegar þeir töpuðu 2-3 gegn Snæfelli. Komist Keflvíkingar í úrslit núna yrði það í fyrsta skipti síðan 2003 sem tvö

Suðurnesjalið mætast í úrslitum. Þá mættust einmitt Grindavík og Keflavík þar sem strákarnir úr Bítlabænum sópuðu Grindvíkingum 3-0.

Grindvíkingar hafa farið 10 sinnum í lokaúrslit frá því að úrslitakeppnin var tekin upp árið 1984. Íslandsmeistaratitlar Grindvíkinga eru þrír, árin 1996, 2012 og 2013. Grindvíkingar eiga flest silfur eftir úrslitakeppni allra liða, eða sjö talsins. Árin 1994, 1995, 1997, 2000, 2003, 2009, og 2014.

FAGLEG, TRAUST OG PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA VIÐ BJÓÐUM MEDISMART RUBY BLÓÐSYKURMÆLA, STRIMLA, BLÓÐHNÍFA OG NÁLAR FRÍTT FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ SKÍRTEINI FRÁ TR. MJÖG EINFALDUR Í NOTKUN, STÓR SKJÁR, LÉTTUR OG HANDHÆGUR - „No coding“ þarf ekki að núllstilla

Oddaleikur í Sláturhúsinu á skírdag Keflavík og Skallagrímur þurfa oddaleik til þess að útkljá einvígi sitt í undanúrslitum kvenna í körfuboltanum en sigurvegarar mæta meisturum Snæfells í úrslitum. Staðan í einvíginu er 2-2 og ljóst að ekki munar miklu á þessum þó ólíku liðum. Skallagrímskonur höfðu sigur í Fjósinu í síðasta leik 77-68 þar sem Tavelyn Tillman skoraði 36 stig fyrir Skalla-

grím og var illviðráðanleg. Hjá Keflavík voru Ariana Moorer og Thelma Dís atkvæðamestar en þær keflvísku áttu í nokkrum vandræðum með sterka vörn Skallagríms lengi framan af en náðu sér á strik í sókninni í lokaleikhlutanum, sem dugði þó ekki til. Oddaleikur fer fram á fimmtudag í Keflavík en þar hafa liðin skipt með sér sigrum hingað til.

- Þarf mjög lítið magn til mælinga, aðeins 0,6µl - Mælir blóðsykur á bilinu 1.1 - 35 mmol/L - Mæling tekur aðeins 5 sek. - Geymir 480 mælingar í minni - Hægt að tengja við tölvu Apótek Suðurnesja leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarksverði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.

Hringbraut 99 - 577 1150

Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.


Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

Mundi

Kjartan farinn að moka inn fasteignagjöldum. STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

twitter.com/vikurfrettir

instagram.com/vikurfrettir

LOKAORÐ Örvars Kristjánssonar

Forgangsröðun Ég starfa í ferðamannaiðnaðnum og hef áður skrifað um þau mál enda hef ég einnig brennandi áhuga á þessum bransa. Félagi minn frá Miami dvaldi hér á landi um síðustu helgi. Þetta var fyrsta koma hans til Íslands en þær verða eflaust fleiri, á ég fastlega von á. Ég var að sjálfsögðu duglegur að sýna honum áhugaverða staði hér á svæðinu. Við tókum góðan lunch hjá Erni á Soho, rúntuðum um Reykjanesið, hentum okkur í Bláa lónið og þá var kíkt á körfuboltaleik (þar sem Grindvíkingar fóru á kostum). Auðvitað var svo Gullni hringurinn tekinn á sunnudeginum með allri þeirri fegurð sem þar leynist. Sá bandaríski var algjörlega heillaður af landi og þjóð, sérstaklega fólkinu og þá sér í lagi hér fyrir sunnan. Hins vegar, á neikvæðu nótunum, þá tók hann vel eftir því hversu slitnir og hættulegir þjóðvegirnir okkar eru orðnir hér á þessu svæði og okkur brá hreinlega á ferðalagi okkar. Ég hef ekki farið Gullna hringinn lengi og ég var eiginlega í smá áfalli. Við Geysi, sem dæmi, komum við að röð bíla sem allir voru með sprungin og skemmd dekk eftir djúpar holur í veginum og slysahættan á köflum þar mjög mikil. Tala nú ekki um að mæta erlendum ferðamanni á einbreiðri brú, algjörlega galið. Viðhaldi þjóðvegarins er ábótavant og með þessari gríðarlegu aukningu ferðamanna og bílaleigubíla þá er deginum ljósara að átak þarf í þessum málum. Við getum tekið á móti öllu þessu fólki en þá verðum við líka að fjárfesta betur í innviðum samfélagsins

og samgöngurnar verða að vera í lagi, fyrst og fremst eins öruggar og hægt er. Tala nú ekki um á þessum stöðum sem taka á móti gríðarlegum fjölda fólks allt árið um kring, þar er mikilvægast að hefjast handa. Reykjanesbrautin og Grindavíkurvegurinn eru svo auðvitað sér kapítular út af fyrir sig en ástand þessara vega er hroðalegt eins og við Suðurnesjamenn þekkjum allt of vel. Nú fer senn að hefjast enn eitt metsumarið í ferðamannabransanum og það er í raun byrjað þótt dagatalið segi kannski annað. Öryggi fólks á þjóðvegunum verður að tryggja. Það er gjörsamlega fráleitt að viðhald veganna sem á undanförnum árum hefur verið skorið niður sé ekki aukið núna í þessu góðæri sem hér ríkir. Ástandið er hreinlega það slæmt. En þetta er í höndum stjórnmálamannanna og því miður þá er erfitt að stóla á þá annars ágætu stétt. Þar tala menn um að það vanti aurinn en á meðan var peningum dælt í Vaðlaheiðagöng sem dæmi (einhverja heimskustu framkvæmd Íslandssögunnar) á meðan annað og mikilvægara sat á hakanum. Furðuleg forgangsröðun og það er hægt að benda á fleiri dæmi. Ferðamenn flykkjast hér til landsins, ýmsar ástæður eru fyrir því en ein þeirra er öryggi, fólki finnst það öruggt hérna. Úti á þjóðvegunum er það svo sannarlega ekki á meðan við leyfum vegakerfinu að grotna niður og ætla ég rétt að vona að menn spýti í lófana í þessum efnum. Óska ykkur öllum gleðilegra páska og farið varlega hvert sem förinni er heitið.

BYGG býður þér til starfa Smiðir

www.bygg.is

Erum að byrja á uppbyggingu Hlíðarsvæði, Reykjanesbæ. Allt unnið í uppmælingu samkvæmt mælingaskrifstofu húsasmiða. Upplýsingar veitir Páll S:693-7316, pallth@bygg.is

Smíðanemar Leitum að frísku ungu fólki til að læra hjá okkur smíðar. Upplýsingar veitir Páll S:693-7316, pallth@bygg.is

Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. (BYGG) hefur á undanförnum árum byggt yfir 3.000 glæsilegar íbúðir á almennum markaði. Fyrirtækið hefur einnig byggt íbúðir fyrir Félag eldri borgara og húsnæðisnefndir í Reykjavík og Kópavogi. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 220 manns og er meðalstarfsaldur hár. Hjá fyrirtækinu er öflugt starfsmannafélag. Traust atvinna í boði.

BYGG byggir á 32 ára reynslu á íslenskum byggingamarkaði.

GÖNGUFERÐ UM NÁGRENNI BLÁA LÓNSINS Á ANNAN Í PÁSKUM Bláa Lónið og Grindavíkurbær bjóða upp á menningar- og sögutengda gönguferð mánudaginn 17. apríl, annan í páskum.

Sigrún Jónsdóttir Franklín verður leiðsögumaður í göngunni og mun hún fræða þátttakendur um leiðina með áherslu á náttúru og sögu svæðisins.

Gangan hefst kl. 11.00 við bílastæði Bláa Lónsins og er áætlað að hún taki um þrjár klukkustundir. Möguleiki er að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til baka. Leiðin sem farin verður er auðveld yfirferðar og hentar fyrir alla fjölskylduna.

Ekkert þátttökugjald er í gönguna. Þátttakendur sem hafa hug á að fara í Bláa Lónið að göngu lokinni er vinsamlegast bent á að ganga tímanlega frá bókun á heimasíðu Bláa Lónsins. Þátttakendur eru á eigin ábyrgð.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook