Skip to main content

19 tbl 2016

Page 1

• Fimmtudagurinn 12. maí 2016 • 19. tölublað • 37. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Kísilver Thorsil komið með trygga orku og stefnir að gangsetningu 2018

Byggingar á Keflavíkurbjargi

Hér má sjá byggingar United Silicon í Helguvík, nokkur hundruð metra frá bjargbrún Keflavíkurbjargs þar sem ljósin ertu tendruð á Ljósanótt. Margir hafa haft orð á því að fegurð bjargsins sé ekki sú sama með stálbyggingarnar á toppnum. Sjá má annað sjónarhorn á myndinni að neðan. VF-mynd/Eyþór Sæmundsson.

Fasteignamarkaðurinn á Suðurnesjum í blóma l Fjöldi fólks af höfuðborgarsvæðinu flyst til Suðurnesja og það lyftir verðinu upp. Vantar eignir á sölu Það er óhætt að segja að fasteignamarkaðurinn á Suðurnesjum hafi tekið kipp á undanförnum misserum, eftir ládeyðu árin eftir bankahrun. Samkvæmt tölum frá Þjóðskrá var 339 kaupsamningum vegna húsnæðis þinglýst á Suðurnesjum á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og var heildarveltan 9.173 milljónir. Til samanburðar var fjöldi þinglýstra kaupsamninga á sama tíma í fyrra 224 og heildarveltan 4.499 milljónir. Í apríl síðastliðnum var 95 kaupsamningum á Suðurnesjum þinglýst en í apríl í fyrra voru þeir mun færri, eða 54. Að sögn Þrastar Ástþórssonar, fasteignasala hjá M2 Fasteignasölu & Leigumiðlun í Reykjanesbæ, hefur sala íbúðarhúsnæðis á Suðurnesjum tekið mikinn kipp á þessu ári. Nokkuð hafi þó lifnað yfir markaðnum á síðasta ári. „Svo hefur þetta verið stigvaxandi og eftirspurnin er alltaf að aukast. Hún er orðin meiri en framboð og það vantar orðið eignir á sölu,“ segir hann.

FÍTON / SÍA

Nokkuð mörg dæmi eru um að eignir hafi verið seldar á hærra verði en upphaflega var sett á þær og segir Þröstur slík tilvik ekki hafa komið upp síðan fyrir bankahrun. „Það má því segja að það sé mikill kippur í gangi.“ Að sögn Þrastar er töluvert um að fólk af höfuðborgarsvæðinu flytji til Suðurnesja og

segir hann það koma markaðnum vel af stað. „Fólki af höfuðborgarsvæðinu finnst íbúðaverðið hér gott að það lyftir verðunum upp. Þau hafa verið að hækka og eru eiginlega að hækka núna í þessum töluðu orðum. Þetta er það sem gerist þegar markaðurinn klárast, það er lítið framboð og þegar nýjar eignir koma inn þá hækka verðin.“ Það er engin ein tegund af íbúðarhúsnæði sem selst betur en önnur þessa dagana, heldur virðist allt seljast. „Það má segja að það sé öll flóran, bæði ódýrasta húsnæðið og það dýrasta. Það má segja að það sé fjör í öllum verðflokkum,“ segir Þröstur. Að sögn Þrastar eru margar skýringar á því hversu líflegur fasteignamarkaðurinn á Suðurnesjum er núna. Að einhverju leiti sé eftirspurn eftir húsnæði uppsöfnuð. „Það er líka bætt staða hjá fólki almennt. Síðan í fyrra hefur fólk sem er að kaupa sína fyrstu eign getað fengið allt að 90 prósent lán hjá bönkunum, en þó með ákveðnu hámarksverði.“ Þröstur nefnir einnig mikla uppbyggingu hér á svæðinu og að næg atvinna sé í boði. Það er því sitt lítið af hverju sem útskýrir líflegan fasteignamarkað á Suðurnesjum þessa dagana.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á Suðurnesjum

einföld reiknivél á ebox.is

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

■■Fyrsti ársfjórðungur 2015 ■■Fjöldi 224 ■■Heildarvelta 4.499 milljónir ■■Fyrsti ársfjórðungur 2016 ■■Fjöldi 339 ■■Heildarvelta 9.173 milljónir

Það má segja að það sé fjör í öllum verðflokkum

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

■■Landsvirkjun og Thorsil hafa skrifað undir samning um afhendingu á rafmagni til kísilvers Thorsil í Helguvík í Reykjanesbæ. Um er að ræða allt að 55 megavött af afli eða sem samsvarar 460 gígavattstundum af orku á ári. Afhending hefst árið 2018 þegar ráðgert er að gangsetja kísilverið. Kísilver Thorsil mun framleiða um 54.000 tonn af kísilmálmi á ári og nota til þess 87 MW af raforku, eða um 730 GWst á ári. Um 130 starfsmenn munu starfa hjá verksmiðjunni. Orkan verður afhent í áföngum úr núverandi aflstöðvakerfi Landsvirkjunar. Sem kunnugt er hefur fyrirtækið nú tvær virkjanir í byggingu, stækkun Búrfellsvirkjunar og jarðvarmavirkjun að Þeistareykjum. Samningurinn er háður tilteknum skilyrðum og þarf meðal annars að hljóta samþykki Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) til þess að öðlast fullnaðargildi. „Það er ánægjulegt að bjóða Thorsil velkomið í raforkuviðskipti við Landsvirkjun. Verkefni Thorsil í Helguvík er kærkomin viðbót við þá uppbyggingu iðnfyrirtækja sem á sér stað í Reykjanesbæ. Samningurinn er hagstæður fyrir báða aðila og í samræmi við þá stefnu Landsvirkjunar að fá hagstætt verð fyrir þá endurnýjanlegu orku sem byggir á auðlindum okkar Íslendinga,“ sagði Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar eftir undirritun samningsins. John Fenger, stjórnarformaður Thorsil, segir undirritun samnings við Landsvirkjun lokaskrefið í vönduðu undirbúningsferli þessa verkefnis. „Með þessum samningi hefur Thorsil tryggt alla orkuþörf kisilvers síns í Helguvík. Við fögnum samstarfinu við Landsvirkjun og gleðjumst yfir því að eiga kost á umhverfisvænni orku til að framleiða kísilmálm sem nýttur verður til að draga úr áhrifum umsvifa mannsins á umhverfið.“ Fyrir í Helguvík er kísisver United Silicon sem er á lokaspretti framkvæmda og stefnir á að hefja framleiðslu núna í sumarbyrjun.

Mikil ásókn í gistingu á Suðurnesjum ■■Ekkert lát virðist vera á eftirspurn eftir gistingu á Suðurnesjum, ekki síður í heimahúsum eða gistiheimilum eins og hótelum. Hjón í Keflavík á eftirlaunaaldri settu herbergi sem þau hafa ekki nýtt í einbýlishúsi sínu á airbnb vefinn og hafa leigt hana út septe m b e r. Vi ð brögðin voru að þeirra sögn ótrúleg. Herbergið bókaðist upp marga mánuði fram í tímann á örfáum dögum. Fjöldi herbergja, íbúða og húsa á Suðurnesjum er í boði á vefnum. „Markmið okkar á að vera að fá fólk til að staldra lengur við en eina nótt sem er lang algengast. Gestirnir sem fara um svæðið eru mjög hrifnir af mörgu á Reykjanesinu,“ sögðu þau. VF veit um fleiri svona dæmi. Mikil ásókn sé í margs konar gistingu og uppbókað sé víða næstu mánuði.


2

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 12. maí 2016

Suðurnesjamenn biðu í röð eftir sjónvörpum ●●Allar tilboðsvörur kláruðust hjá Tölvulistanum á skömmum tíma Það var komin myndarleg röð klukkustund fyrir opnun.

„Það rauk allt út, kláraðist allt sem var á tilboði,“ segir Sverrir Rúts Sverrisson verslunarstjóri Tölvulistans í Reykjanesbæ í samtali við Víkurfréttir. Verslunin bauð upp á ansi myndarleg tilboð á föstudaginn var vegna flutnings, þar sem m.a. var hægt að fá 55” sjónvörp á 99 þúsund krónur og 50% afsláttur var af völdum vörum. Sverrir segir að fólki hafi verið þokkalega heitt í hamsi enda var komin myndarleg biðröð fyrir utan búðina rétt fyrir klukkan níu, en búðin opnar klukkustund síðar. Segja má að stemningin hafi minnt örlítið á hinn alræmda „Svarta föstudag,“ sem hefur verið að ná fótfestu hér á landi. „Það var brjálað að gera hérna bæði á föstudag og laugardag og talsvert meira en við bjuggumst við,“ bætir Sverrir við, en á laugardeginum var verið að kynna sýndarveruleikatæknina Oculus Rift og HTC Vive. Sverrir gerir ráð fyrir því að 12 vörubretti af ýmsum vörum hafi rokið út á föstudeginum, þar á meðal hafi verið um 90 sjónvarpstæki.

Instagram vikunnar

unnurmaria

Unnur María Steinþórsdóttir

GOTT ÚRVAL AF SLAUFUM OG BINDUM HJÁ OKKUR

Kaskó verður Nettó

Sumaropnun Lokað á mánudögum. Þriðjudaga-föstudaga verður opið frá kl. 10:00-18:00.

PIPAR\TBWA

•

SÍA

•

162271

Skoðaðu okkur á Facbook Skóvinnustofa Sigga.

OLÍS VILL FJÖLGA Í GÓÐUM HÓPI STARFSFÓLKS Við óskum eftir ábyrgðarfullu og kraftmiklu starfsfólki í fullt starf og hlutastörf við almenna afgreiðslu á þjónustustöð Olís, Básnum í Keflavík. Störfin fela í sér almenna afgreiðslu, áfyllingar vöru, vörumóttöku, þrif, þjónustu við viðskiptavini og annað tilfallandi.

Sverrir Rúts Sverrisson verslunarstjóri Tölvulistans og Heimilistækja.

Unnið er á tvískiptum vöktum. Skilyrði er að umsækjendur hafi hreint sakavottorð og séu reyklausir. Hægt er að sækja um störfin á vefsíðunni olis.is/um-olis/starfsumsokn. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar á staðnum.

Áhersla er lögð á ríka þjónustulund, stundvísi, snyrtimennsku og hæfni í mannlegum samskiptum.

Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, stuðning til náms og heilsueflingar, heiðarleika í samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð.

Ný Nettó verslun á Iðavöllum í Reykjanesbæ verður opnuð á morgun föstudag en þar hefur í mörg ár verið Kaskó verslun. Nettó verslunin verður byggð upp í sama stíl og aðrar Nettó verslanir þar sem áhersla er lögð á lágt verð og mikið vöruval auk þess sem meira verður um eigin innflutning á vegum Nettó. Í nýju Nettó versluninni verður sett upp úðunarkerfi í grænmetistorgi sem viðheldur lengur ferskleika ávaxta og grænmetis auk þess sem boðið verður upp á „bakað á staðnum“ sem notið hefur mikilla vinsælda í Nettó verslunum, enda lagt upp með mikil gæði, lágt verð og regluleg tilboð. Að sögn Gunnars Egils Sigurðssonar, forstöðumanns verslunarsviðs Samkaupa, verður með breytingunum á Iðavöllum komið til móts við þarfir viðskiptavina og aukinn fjölda ferðamanna sem leggja leið sína í Reykjanesbæ. Í tilefni dagsins munu forsvarsmenn Samkaupa undirrita styrktarsamning við meistaraflokk kvenna í knattspyrnu í Keflavík, Golfklúbb Suðurnesja og Púttklúbb Suðurnesja.

Verður Reykjaneshöllin „Phillips-höllin“? ■■Stjórn Knattspyrnudeildar Keflavíkur í samstarfi við Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur fengið samþykkt í Íþrótta- og tómstundaráði Reykjanesbæjar að „selja“ Reykjaneshöllina til styrktaraðila. Hún mun næstu þrjú árin bera nafnið Phillips-höllin. Umsókn þessa efnis var samþykkt á fundi ráðsins 3. maí sl. Málið var lokaafgreiðslu á bæjarstjórnarfundi 17. maí nk. Reykjaneshöllin var fyrsta knattspyrnuhöllin á Íslandi og var tekin í notkun í febrúar árið 2000.

Álfurinn 2016 - fyrir unga fólkið


Prófaðu Fabiu í sólarhring Raf / Bensín Ekinn þús. km. Myndir á vef Dísil Fjórhjóladrif Metan & bensín Sjálfskiptur Beinskiptur Rafmagnsbíll

ŠKODA Fabia býr yfir ótal kostum, en fögur orð og fyrirheit koma ekki í staðinn fyrir persónulega reynslu. Því langar okkur að lána þér Fabiu í sólarhring. Komdu við hjá okkur eða sendu póst á skoda@hekla.is og fáðu nýja ŠKODA Fabiu til reynslu í 24 tíma. Hlökkum til að sjá þig.

Verð frá aðeins

2.290.000 kr. HEKLA · Njarðarbraut 13 · Reykjanesbæ · Sími 590 5090 · heklarnb.is

www.skoda.is


markhönnun ehf

FRÁBÆR OPNUNARTILBOÐ

Opnum 13.

maí k l. 12:0 0

NETTÓ IÐAVÖLLUM -25%

-44%

-22%

GRÍSAKÓTILETTUR, FERSKAR

KJÖTSEL FERSKT NAUTGRIPAHAKK

895

1.088

ÁÐUR 1.598 KR/KG

ÁÐUR 1.450 KR/KG

-

-25% NETTÓ KJÚKLINGALEGGIR

MS GÓÐOSTUR, STÓR 26%

EGILS KRISTALL, SÍTRÓNU - 1 L

678

1.199

98

ÁÐUR 869 KR/KG

ÁÐUR 1.598 KR/PK

ÁÐUR 203 KR/KG

-28% -50% IRONMAXX IMPERIUS PRÓTEINBAR - 87 G M. HNETUSMJÖRI

IRONMAXX PRÓTEIN STYKKI - 35 G SÚKKULAÐI/BLÁBERJA/BANANA

BLÁBER, BOX - 125 G

333

179

289

ÁÐUR 489 KR/STK

ÁÐUR 249 KR/STK

ÁÐUR 578 KR/PK

Tilboðin gilda einungis í Nettó Iðavöllum 13. – 15. maí 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

M


-50%

M

Ferskt FERSKT, KINDAFILLE, KRYDDAÐ

2.860

-40%

ÁÐUR 5.719 KR/KG

-18% NETTÓ KJÚKLINGUR, HEILL

KJARNAFÆÐI SIRLOINSNEIÐAR

1.397 ÁÐUR 2.329 KR/KG

-30% SÆTAR KARTÖFLUR

696

244

ÁÐUR 849 KR/KG

349 KR/KG

-20%

-50% SS ÆRBÓGUR, 2 Í PK, ÁN SKANKA, FROSINN

TANGO ORANGE - 33 CL

699

79

ÁÐUR 1.398 KR/KG

ÁÐUR 99 KR/STK

LINDU BITAR, CONGA - 200 G LINDU SMÁ BUFF - 200 G

LAY’S - 175 G PAPRIKA/SALTED

129

235

PEPSI - 2 L

ÁÐUR 269/279 KR/PK

ÁÐUR 310 KR/PK

139 ÁÐUR 197 KR/STK

www.netto.is | Opið 9 - 21 alla helgina í Nettó Iðavöllum Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Glerártorg · Hrísalundur · Húsavík · Höfn · Iðavöllum · Grindavík · Krossmóa · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss


markhönnun ehf

-30% Ferskt

FRÁBÆR OPNUNARTILBOÐ

FERSKT, LAMBA PRIME

3.023 ÁÐUR 4.318 KR/KG

-32%

-

-30%

-50%

FERSKT, NAUTAGRILLPINNI M. GRÆNMETI 3 Í BAKKA - 950 KR/STK

BÖKUNARKARTÖFLUR

1.087

139

ÁÐUR 1.598 KR/KG

ÁÐUR 199 KR/KG

-26% JARÐARBER - 250 G

TOPPUR, KOLSÝRÐUR - 2 L

275

89

ÁÐUR 549 KR/PK

ÁÐUR 120 KR/STK

-41%

-40%

-40%

SIMPLY SOAP BERRY, 128 ÞVOTTA, 946 - ML

1.799 ÁÐUR 2.998 KR/PK

-39%

NICE ‘N EASY ST. BAKED PIZZA HAWAII - 345 G HAM&MOZZARELLA - 340 G

COOP HVÍTLAUKSBRAUÐ 2 STK - 350 G

EMERGE ORKUDRYKKUR - 250 ML ORIGINAL/BERRY

259

179

79

ÁÐUR 439 KR/STK

ÁÐUR 298 KR/PK

ÁÐUR 129 KR/STK

Tilboðin gilda einungis í Nettó Iðavöllum, 13 – 15. maí 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

M


-50% GRÍSABÓGUR

449 ÁÐUR 898 KR/KG

-15%

-55% COCA COLA - 1 L

NETTÓ KJÚKLINGABRINGUR

1.783

99

ÁÐUR 2.098 KR/KG

ÁÐUR 219 KR/STK

-40%

-20%

-30%

-20%

L

Opnum 13.

CASA FIESTA VÖRUR

GALAXY COUNTERS BAG GALAXY LITTLE TREAT BAR PICK UP - 3 TEGUNDIR

-40%

69/49/79

AFSLÁTTUR

ÁÐUR 79/99/99 KR/PK

maí k l. 12:0 0

FRÍR FJÖLNOTAPOKI FYLGIR HVERRI INNKAUPAKERRU.

ML

KAFFI OG KAKA Í BOÐI NETTÓ www.netto.is | Opið 9 - 21 alla helgina í Nettó Iðavöllum Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Glerártorg · Hrísalundur · Húsavík · Höfn · Iðavöllum · Grindavík · Krossmóa · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss


8

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 12. maí 2016

Francisco flutti til frænda síns á Flúðum þegar hann var 16 ára. Nokkrum árum fluttu svo foreldrar hans og yngri bróðir til Íslands. Með þeim á myndinni eru Rúna, eiginkona Francisco og Magnea, unnusta Fernando yngri.

FLUTTI 15 ÁRA AÐ HEIMAN OG TIL ÍSLANDS

●●Francisco Valladares Serrano flutti 15 ára gamall frá Hondúras til frænda síns á Flúðum. Seinna flutti fjölskyldan hans til landsins og hafa þau komið sér vel fyrir í Reykjanesbæ.

Francisco Valladares Serrano var aðeins 15 ára gamall þegar hann flutti að heiman frá fjölskyldunni sinni í Hondúras og hélt á vit ævintýranna til Íslands. Hann flutti til frænda síns sem þá bjó á Flúðum og hóf nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Síðan eru liðin níu ár og nú er Valladares fjölskyldan sameinuð á ný því að foreldrar hans og bróðir fluttu til Íslands fyrir fjórum árum og saman reka þau veitingastaðinn Fernando´s við Hafnargötu í Reykjanesbæ. Eftir að Francisco lauk stúdentsprófi frá FSu hóf hann nám í tæknifræði við Keili á Ásbrú og þannig lá leið hans til Suðurnesja. Er öruggur á Íslandi

RITSTJÓRNARPISTILL Dagný Hulda Erlendsdóttir

VERUM EKKI OF GÓÐ VIÐ OKKUR Í GÓÐÆRINU Fasteignamarkaðurinn á Suðurnesjum er líflegur þessa dagana eins og fram kemur á forsíðu Víkurfrétta í dag. Þannig er það reyndar líka víðar um land. Fólk sem af ýmsum ástæðum hafði ekki stækkað við sig eftir hrun, eða hafði misst eign sína og verið að leigja, sér nú fram á að geta keypt og þannig komist í framtíðarhúsnæði. Þá eru bankarnir farnir að bjóða upp á lán fyrir 90 prósentum af kaupverði fyrir fólk sem er að kaupa sína fyrstu eign. Sumir segja að það sé að koma góðæri aftur og er ýmislegt sem bendir til þess. Til dæmis er fólk farið að yfirbjóða fasteignir en það hefur víst ekki gerst hér á Suðurnesjum síðan fyrir hrun. Þó svo að það sé eflaust gaman fyrir marga í góðæri er mikilvægt að muna eftir síðasta góðæri sem var líka skemmtilegt, en með sársaukafullum eftirköstum. Við fjölskyldan keyptum okkur framtíðarhúsnæði eftir bankahrunið og vorum heppin að hitta á reyndan fasteignasala sem bar hag okkar fyrir brjósti. Eftir langa leit fundum við hálfklárað hús sem vel gat rúmað sex manna fjölskyldu. Eftir að hafa farið í gegnum greiðslumat og allt var klappað og klárt og ekkert eftir nema að skrifa undir kaupsamninginn spurði fasteignasalinn mig hvort ég væri alveg viss um að vilja ráðast í þetta verkefni að kaupa óklárað hús. Hann hafði horft upp á svo margt ungt fólk kaupa sér ókláruð hús og spenna bogann svo alltof hátt við framkvæmdirnar. Þetta var rétt áður en við áttum að greiða honum mörg hundruð þúsund í sölulaun. Eftir gott spjall sannfærði hann mig um að best væri að kaupa bara eina og eina spýtu þegar fjárhagurinn leyfði. Nokkrum árum seinna er húsið okkar ekki enn fullklárað en það er í góðu lagi. Eitt er víst að ráðleggingarnar frá fasteignasalanum voru góðar og eiga jafn vel við núna og þá.

,,Að líkja Hondúras og Íslandi saman er í rauninni eins og svart og hvítt,” segir Francisco, aðspurður um viðbrigðin við að flytja frá Mið-Ameríkuríkinu Hondúras og til Íslands. ,,Það er mjög heitt í Hondúras en snjór og kuldi hér. Þetta var svolítið erfitt fyrst því að ég talaði ekki íslensku en hafði verið í enskuskóla í Hondúras og gat því bjargað mér á ensku. Í FSu eignaðist ég vini frá Kólumbíu og Chile og við gátum talað saman á spænsku og það hjálpaði mér mikið. Ég kunni þó strax vel mig á Íslandi og finnst fínt hvað það er allt rólegt hérna, miðið við í Hondúras þar sem fólksfjöldinn er miklu meiri.” Þá segir Francisco mikið um glæpi í Hondúras og því öruggara fyrir hann að búa á Íslandi. Það hafi þó tekið nokkur ár fyrir fjölskylduna hans að flytja til Íslands því að þar ráku foreldrar hans fyrirtæki sem þau þurftu að selja áður en þau fluttu. Þegar Francisco var um tvítugt fluttu foreldrar hans og yngri bróðir svo loksins til Íslands og segir hann það hafa verið mjög gott að fá þau til sín. ,,Ég fór eins oft og ég gat til Hondúras að hitta þau en það var dýrt svo það var miklu betri lausn að þau flyttu hingað.”

Sósan er fjölskylduleyndarmál

Þau fjölskylduna hafði lengi dreymt um að opna saman veitingastað og létu verða af því í byrjun síðasta árs eftir að þau fundu hentugt húsnæði við Hafnargötu í Reykjanesbæ. Húsnæðið leigja þau af Bóa, eiganda Kaffi Duus, og segir Francisco þau vera honum mjög þakklát því að hann hafi hjálpað þeim mikið við að láta drauminn um fjölskylduveitingastað rætast. Francisco segir reksturinn hafa gengið vonum framar. Hann átti eftir tvær

Ítalskur matur er vinsæll í Hondúras. Á myndinni er Francisco við pítsubakstur.

annir í tæknifræðinni við Keili þegar þau opnuðu staðinn en ákvað fljótlega að gera hlé á náminu til að geta einbeitt sér að matseldinni og öðrum rekstri á Fernando´s. Þó svo að þau komi öll frá Hondúras er ekki neinn réttur þaðan á matseðlinum, heldur eru flestir réttirnir ítalskir og segir Francisco ítalskan mat mjög vinsælan í Hondúras. Þau fjölskyldan leggja áherslu á að gera eins mikið og hægt er frá grunni og eru sannfærð um að maturinn verði miklu betri þannig. ,,Við viljum að maturinn okkar sé eins og heimagerður en ekki með neinum verksmiðjukeim. Við blöndum kryddin sjálf, gerum eftirréttina frá grunni og sósan á pítsurnar okkar er fjölskylduleyndarmál. Mamma bjó uppskriftina til en það var svolítið snúið að finna rétta hráefnið í hana hérna á Íslandi en hafðist fyrir rest. Við fundum að lokum hráefni sem er mjög líkt því sem við þurftum.” Á dögunum settu þau saman nýjan matseðil og segja þau það hafa verið töluverða þolinmæðisvinnu þar sem þau voru ekki öll sammála um það hvernig hann ætti að vera. ,,Það er stundum erfitt þegar fjölskyldan er

saman öllum stundum í vinnunni og við verðum alveg þreytt á hvort öðru,” segir Francisco og brosir. Þau eru þó ánægð að vinna saman enda gengur yfirleitt vel. Claudia, mamma Francisco, hefur yfirumsjón með eldhúsinu á Fernando´s og eldar nær allan mat fyrir utan pítsurnar sem pítsubakari eldar. Pabbi hans, Francisco eldri, sér um að panta inn hráefni og aðstoðar í eldhúsinu. Veitingastaðurinn er nefndur eftir yngri bróður Francisco, honum Fernando. Hann stundar nám í húsasmíði við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og tekur reglulega vaktir sem þjónn á fjölskylduveitingastaðnum. Francisco er giftur Rúnu Björk Valladares Einarsdóttur og eiga þau von á sínu fyrsta barni saman í lok maí en fyrir á hún eina dóttur. Unnusta Fernando heitir Magnea og hafa þær, eins og aðrir í fjölskyldunni tekið virkan þátt í rekstri á fjölskyldufyrirtækinu.

Eru með sterkustu pítsu landsins

Einn af vinsælustu réttunum á Fernando´s er Lava pítsa sem Francisco segir sennilega sterkustu pítsu á Íslandi. ,,Á henni er okkar fræga Lava sósa. Það er heimatilbúin chili sósa. Það hefur komið fyrir að fólk eigi erfitt með að ná andanum eftir eina Lava pítsu og þá bjóðum við því upp á íspinna til að kæla sig niður. Við aðvörum þó alla sem panta sér þessa.” Á dögunum stækkaði fjölskyldan staðinn og er nú komin með annan sal eftir að hafa rifið niður íbúð sem var tengd við staðinn. ,,Ég finn að sumarið er að koma því það eru svo margir hópar búnir að panta hjá okkur, bæði ferðamenn, vina- og vinnuhópar. Það er eiginlega alveg brjálað að gera en það er nú bara lúxusvandamál sem við leysum enda höfum við verið mjög heppinn að getað ráðið til okkar hóp af góðu fólki.”

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.


98

195

kr. stk.

kr. 170 g

Íslenski Fáninn

Doritos Snakk 170 g, 4 teg.

ALLT FYRIR EUROVISIONVEISLUNA

4grö5m0m

259

198 kr. 160 g

kr. 450 g

98

kr. 40 g OLW Ostasnakk 160 g, 2 teg.

Pringles Snakk 40 g, 3 teg.

Euro Shopper Tortilla Chips 450 g, 2 tegundir

159 kr. 250 g

OLW Saltstangir 250 g

198 kr. stk.

Bugles Snakk 2 tegundir, 125 g

98

kr. 100 g Euro Shopper Súkkulaði 100 g, 5 teg.

Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 15. maí eða meðan birgðir endast


10

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 12. maí 2016

FIMM SNJÖLL: SIGGEIR F. ÆVARSSON

LAUS STÖRF Sumarstarfsmaður í Ráðhúsi. Mjög fjölbreytt starf á umhverfissviði, mest almennt þjónustustarf, skjala- og ritvinnsla. Um 100% starf er að ræða með vinnutíma kl. 08-16 virka daga. Umsóknarfrestur er til 26. maí 2016. Nánari upplýsingar veitir Guðlaugur H Sigurjónsson sviðsstjóri, gudlaugur.h.sigurjonsson@reykjanesbaer.is. Sumarstarfsmaður í þjónustukjarna. Þörf er fyrir kraftmikla manneskju sem langar að vinna á bæði gefandi og krefjandi vinnustað í þjónustukjarna fatlaðs fólks við Suðurgötu. Einstaklingsmiðaður og persónulegur stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis. Möguleiki er á að starfið verði að framtíðarstarfi. Umsóknarfrestur er til 26. maí 2016. Nánari upplýsingar um starfið veitir Vilborg Pétursdóttir verkefnisstjóri, s: 420-3260. Netfang: vilborg.petursdottir@reykjanesbaer.is. Umsóknum í ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf, þar sem einnig má nálgast nánari upplýsingar.

VORTÓNLEIKAR OG SKÓLASLIT Almennir vortónleikar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar standa nú yfir. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Síðasti kennsludagur er föstudagurinn 20. maí. Skólaslit verða í Stapa, Hljómahöll, fimmtudaginn 26. maí kl.18.00. Nánari upplýsingar um ofangreint er að finna á vefsíðu skólans tonlistarskoli.reykjanesbaer.is og á skrifstofunni í síma 420-1400. Skólastjóri

Allir ættu að hafa Indriða í símanum Siggeir F. Ævarsson upplýsinga- og skjalafulltrúi Grindavíkurbæjar notast mikið við snjallsímann á hverjum degi. Siggeir er sagnfræðingur að mennt og fyrrum menntaskólakennari. Siggeir notar fjölbreytt og skemmtileg smáforrit bæði til gagns og gamans NBA

Oftast fyrsta appið sem ég opna á morgnana á meðan ég er ennþá að koma mér í gang. Renni yfir úrslit næturinnar og horfi á klippur úr leikjum. Þetta app er stútfullt af efni og ef maður er með League Pass áskrift getur maður horft á leiki í HD, bæði í beinni og endursýningu seinna.

BaconReader

App fyrir vefsíðuna Reddit. Sótti það upprunalega fyrir forvitnis sakir eingöngu út á nafnið þegar ég var að skoða hvað væri til í Play Store sem tengdist beikoni en svo svínvirkar þetta bara.

anum. Svo getur maður fengið sendar áminningar ef maður er að gleyma að bæta í keðjuna.

MyFitnessPal

App til að halda utan um hvað maður lætur ofan í sig. Pottþétt leið til að losa sig við aukakílóin, ef maður nennir að leggja á sig smá vinnu við að skrá inn í það. Fullt af íslenskum vörum í gagnagrunninum, sem er kostur.

Goal Tracker

Ég las bók í fyrra sem heitir „1-minutes habits“ sem fjallar um það hvernig maður getur komið sér upp góðum siðum með því að gera þá að vana. Eitt trix sem var nefnt í bókinni var að koma hlutum í sjónræna keðju. Jerry Seinfeld gerði þetta víst þegar hann var að byrja sinn feril sem uppistandari. Þá skrifaði hann efni á hverjum degi og merkti X á dagatal fyrir hvern dag sem hann skrifaði eitthvað. Smám saman myndast „keðja“ sem maður vill helst ekki slíta og þannig heldur maður áfram og áfram. Goal Tracker heldur utan um svona keðjur en í staðinn fyrir að hafa þær á blaði eða dagatali eru þær í sím-

Endomondo

Ég hef verið að nota þetta lengi til að halda utan um alla hreyfingu, en reyndar skilst mér að allir alvöru hjólreiðamenn noti Strava. Endomondo og MyFitnessPal tala líka saman sem auðveldar manni lífið.

Indriði - Bónus app

Það ættu allir að vera með Indriða í símanum sínum, en það er app sem inniheldur hljóðklippur úr gömlu Fóstbræðraþáttunum. Það er aaaaalveg.

BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR

GOLFKYNNING

SMÁAUGLÝSINGAR

Þriðjudaginn 17. maí kl. 19.30 kemur Jóhann Páll Kristbjörnsson formaður Golfklúbbs Suðurnesja og kynnir golf í bókasafninu. Heitt á könnunni og allir hjartanlega velkomnir

ÞJÓNUSTA Vinnuaðstaða í Garði eða nágrenni Vantar vinnuaðstöðu með rafmagni og hita fyrir létta handverksframleiðslu. Stærð 15 - 30 fermetrar. Uppl. í sima 456 2172 / 861 1436 eða sdyri@ simnet.is

FJÖR Á 17. JÚNÍ Einstaklingar og félagasamtök. Hverjir vilja taka þátt í fjölskyldudagskránni í skrúðgarðinum á 17. júní? Ertu með góða hugmynd eða gott atriði? Hafðu samband á netfangið menningarfulltrui@reykjanesbaer.is.

UMSÓKNIR NÝNEMA Umsóknir nýrra nemenda um skólavist í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar næsta skólaár eru á vef skólans, tonlistarskoli.reykjanesbaer.is undir hnappnum „Nýjar umsóknir“ og á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is undir hnappnum „Tónlistarskóli Reykjanesbæjar-Nýjar umsóknir.“ Einnig er hægt að sækja um skriflega á umsóknareyðublöð sem liggja frammi á skrifstofu skólans, Hjallavegi 2. Skólastjóri

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979

Fjölmenni við útför Ragnars Arnar Útför Ragnars Arnar Péturssonar, fyrrverandi íþróttafulltrúa Reykjanesbæjar, var gerð frá Keflavíkurkirkju sl. miðvikudag. Mikið fjölmenni var við útförina og var þétt setið bæði í kirkjunni og í safnaðarheimilinu. Það voru synir Ragnars og samstarfsmenn úr félagsmálum í Reykjanesbæ sem báru kistuna úr kirkju. Ragnar Örn lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 29. apríl sl. eftir skammvinna baráttu við krabbamein. Ragnar Örn starfaði sem íþróttafulltrúi Reykjanesbæjar í nær 20 ár. Hann var ötull þátttakandi í íþróttastarfi Reykjanesbæjar og átti sæti í íþróttaráði Keflavíkur frá 1986 til 1998. Hann var formaður Íþróttabandalags Keflavíkur frá árinu 1994 til 1998. Ragnar

Örn var varabæjarfulltrúi fyrir Sjálstæðisflokkinn í Keflavík frá 1990 til 1994 og starfaði fram til dánardags fyrir Sjálstæðisflokkinn í Keflavík og var formaður Fulltrúaráðs flokksins. Ragnar Örn var formaður Starfsmannafélags Suðurnesja í 14 ár frá 1999 til 2013 og sat þau ár einnig í stjórn BSRB. Ragnar Örn var virkur meðlimur Kiwanis-hreyfingarinnar og gegndi þar fjölmörgum trúnaðarstörfum, þar á meðal var hann umdæmisstjóri hreyfingarinnar á Íslandi og í Færeyjum frá árinu 2011 til 2012 og sat í Evrópustjórn þann tíma. Ragnar Örn lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn og 10 barnabörn.

www.bilarogpartar.is

Verið velkomin

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84


NÝTT SPF 30

HALLÓ SÓLSKIN, BLESS BLESS HRUKKUR.

MINNKAR HRUKKUR. VERNDAR GEGN ÖLDRUN AF VÖLDUM SÓLARINNAR. NIVEA.com


12

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 12. maí 2016

FJÖLMENNT Í KVIKMYNDAVERINU Á ÁSBRÚ

Hinn árlegi opni dagur á Ásbrú fór fram sl. fimmtudag þegar þúsundir landsmanna mættu í karnivalstemmningu í Atlantic Studios kvikmyndaverinu á Ásbrú. Þar var allt með amerísku yfirbragði, fjölmargir sölu- og kynningarbásar og matarvagnar og matsölur með gott í gogginn. Þá var boðið upp á skoðunarferð um Orion P-3 kafbátaleitarflugvél sem kom sérstaklega hingað til lands til að taka þátt í opna deginum en bandaríska sendiráðið á Íslandi hafði milligöngu um komu vélarinnar en sendiráðið hefur verið virkur þátttakandi í Ásbrúardeginum undanfarin ár. Fræðsla og fjör var yfirskrift opna dagsins að þessu sinni. Ævar vísindamaður og Jónsi partístjóri sáu um að allt færi vel fram. Meðfylgjandi myndir voru teknar á hátíðinni.

Mörgum brá við auglýsingu um minningartónleika um Valdimar Eftir að útsendingu frá Eurovision lauk á RÚV á þriðjudagskvöld birtist á skjánum auglýsing um minningartónleika um Valdimar Guðmundsson, tónlistarmann úr Keflavík. Margir tóku andköf við fréttir af mögulegu andláti hans en til allrar hamingju er hann sprelllifandi. Tilefni auglýsingarinnar er það að Valdimar ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni í ágúst og leyfa fólki að fylgjast með undirbúningnum á netinu. Í maraþoninu ætlar hann að fara tíu kílómetra. Valdimar fékk strax mikil viðbrögð við auglýsingunni og segir samfélagsmiðla sína hafa logað í kjölfarið. Sjálfum fannst honum hugmyndin að baki auglýsingunni strax góð. „Mér fannst þetta strax skemmtileg hugmynd sem ég vissi að myndi sjokkera fólk,“ segir hann. Þegar sú hugmynd kom upp að hann myndi verða andlit Reykjavíkurmaraþons í ár, leist honum þó ekkert of vel á það, en eftir að hafa pælt meira í því

og hvað hann þyrfti að gera fannst honum þetta ekkert mál. Í október síðastliðnum setti Valdimar inn færslu á Facebook síðu sína um að hann hefði áhyggjur af holdafari sínu og ætlaði að gera eitthvað róttækt í málunum. Hugmyndina fékk hann eftir að hafa fengið martröð um að hann væri að deyja. Í viðtali við Kastljós stuttu eftir að hann birti færsluna sagði Valdimar frá því að hann hefði á þessum tíma verið veikur og með stíflað nef, auk þess að þjást af kæfisvefni. Þessa nótt gat hann varla andað og dreymdi að hann gæti ekki andað. Eftir nótt-

ina vaknaði hann alveg útvinda og þreyttur. „Ég hugsaði með mér að ef þetta hefði verið aðeins dýpri svefn hefði ég getað verið dauður. Þetta var vakning fyrir mig því að ég varð hræddur. Þetta fékk mig til að hugsa meira um þetta og framtíðina,“ sagði Valdimar í viðtali við Kastljós í fyrra. Síðan Valdimar setti færsluna á Facebook hefur hann stundað ræktina þar sem hann er með einkaþjálfara og hefur tekið mataræðið í gegn. Reykjavíkurmaraþonið verður því framhald á vegferð Valdimars sem hófst fyrir rúmu hálfi ári.


fimmtudagur 12. maí 2016

13

VÍKURFRÉTTIR

ATVINNA

Afþreying:

SUDOKU FYRIR SVEFNINN

Vökvatengi ehf óskar eftir starfsmönnum í verlsun og á verkstæði. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og vera reglusamur. Upplýsingar veitir Skúli Ásgeirsson í síma 893-1391

Guðbjörg Guðmundsdóttir er söngnemi við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og vinnur með náminu á Keflavíkurflugvelli. Hún býr í Keflavík með kærastanum sínum og tveimur kisum. Guðbjörg er í Kvennakór Suðurnesja og söng í síðustu viku einsöng með kórnum á tvennum vortónleikum í Hljómahöll. Hún leysir sudokuþrautir fyrir svefninn, hlustar á geisladiska í bílnum og er mikill aðdáandi Simpsons þáttanna. Tónlistin

Ég les ekki mikið en bókin sem er á náttborðinu núna er Sudoku bók. Mér finnst æðislegt að fara aðeins fyrr upp í rúm og leysa nokkrar sudoku þrautir fyrir svefninn, það er frábær leið til að ná sér niður eftir daginn. Ég hekla mikið og stundum

er ég með eitt lítið heklverkefni í náttborðskúffunni sem ég gríp í þá morgna sem ég get sofið út. Annars hekla ég oftast yfir sjónvarpinu, þar sem ég get ekki setið kyrr nema hafa eitthvað í höndunum. Ég er mikill föndrari og fyrir utan það að hekla geri ég líka kort, skartgripi og ýmislegt annað sem mér dettur í hug.

Þátturinn

Ég er mikill aðdáandi the Simpsons og set það oft á ef ég er heima, þótt ég sé ekkert að horfa mikið á það, læt það bara spilast í bakgrunninum. Þegar ég ætla svo að setjast niður og horfa á sjónvarpið set ég á Netflix. Núna er ég að horfa á Gossip Girl og við kærastinn horfum saman á Sherlock Holmes. Svo finnst mér mjög gaman af þáttum eins og The Big Bang Theory og Modern Family. Öðru hverju setjumst við niður og horfum á nokkra nýjustu þættina.

16 -15 5 4 - H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A

Bókin

Ég hlusta ekki mikið á útvarpið heldur er ég yfirleitt með geisladiska í bílnum. Núna er ég með safndisk með frægum píanóverkum eftir tónskáldið Erik Satie. Aðrir geisladiskar sem ég set á er diskurinn frá Kaleo, „best of “ eða nýjasti diskurinn frá Muse og safndiskur frönsku söngkonunnar Edith Piaf.

D E I L DA R S TJ Ó R I REIKNINGSHALDS OG UPPGJÖRA Við leitum að öflugum stjórnanda með háskólamenntun sem nýtist í starfi. Reynsla af bókhaldi og uppgjörum og mjög góð Excel kunnátta er skilyrði. Löggilding í endurskoðun er kostur. Starfs- og ábyrgðarsvið • Yfirumsjón með bókhaldi samstæðunnar • Annast reikningshald og uppgjör fyrirtækisins ásamt dótturfyrirtækjum samstæðunnar • Lokafrágangur í mánaðar- og árshlutauppgjörum • Frágangur gagna til skattayfirvalda • Umsjón og eftirlit með samþykktum og greiðslu reikninga samstæðunnar • Samskipti við endurskoðendur félagsins, þ.m.t. skil á bókhaldi til endurskoðunar • Skýrslugjöf vegna skuldbindinga, skattamála o.fl. • Þátttaka í umbótaverkefnum og stefnumótun sviðsins Nánari upplýsingar veitir Sveinbjörn Indriðason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs á sveinbjorn.indridason@isavia.is

Isavia rekur öflugt net flugvalla á Íslandi og flugleiðsöguþjónustu á einu stærsta flugstjórnarsvæði heims. Hjá Isavia og dótturfélögum vinnur samhentur hópur sem telur um 1.200 manns. Okkar markmið er að vera hluti af góðu ferðalagi allra þeirra sem fara um flugvelli okkar og flugstjórnarsvæði.

S TA R F S T Ö Ð

UMSÓKNARFRESTUR

UMSÓKNIR

K E F L AV Í K

1 7. M A Í 2 0 1 6

I S AV I A . I S/AT V I N N A

Aðalfundur Leikfélags Keflavíkur Verður haldinn 19.maí kl.20.00 í Frumleikhúsinu að Vesturbraut 17. Dagskrá fundarins: 1.Skýrsla formanns 2.Skýrsla gjaldkera 3.Breytingar á lögum félagsins 4.Kosning í nýja stjórn 5.Skráning í félagið 6.Önnur mál.

Hvetjum alla meðlimi nýja sem gamla til að mæta og hvetjum einnig þá sem hafa áhuga að vera í leikfélaginu að koma og skrá sig.


14

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 12. maí 2016

Börnin eru stjörnurnar á vinsælustu listasýningu ársins ●●Listahátíð barna haldin í ellefta sinn

Listahátíð barna í Reykjanesbæ var sett á dögunum með pompi og prakt í ellefta sinn. Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafns Reykjanesbæjar, allra 10 leikskóla bæjarins, allra sex grunnskólanna, Tónlistarskólans, dansskólanna Bryn Ballett Akademíunnar og Danskompanís og listnámsbrautar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Guðlaug María Lewis er verkefnastjóri listahátiðarinnar. „Þetta byrjaði allt með bara einum leikskóla sem fékk leyfi til þess að vera í Duus húsunum með litla listahátíð fyir foreldra,“ segir verkefnastjórinn. Nú er það svo komið að öll leiksskólabörn Reykjanesbæjar taka virkan þátt í hátíðinni. Grunnskólinn kom inn nokkru síðar í hátíðina og nú síðast í fyrra tók Fjölbrautaskólinn þátt í fyrsta sinn. Mikil rannsóknarvinna og sköpunargleðin fær að njóta sín

Í leikskólum er byrjað á hausti að skipuleggja og vinna að hugmyndavinnu fyrir hátíðina. „Börnin leggjast í rannsóknarvinnu og fara í vettvangsferðir. Þau virkilega velta hlutunum fyrir sér. Sem er ofboðslega skemmtilegt. Það er lögð rík áhersla á að þeirra hugmyndir fái að njóta sín,“ segir Guðlaug. Nú er það þannig að listahátíð barna er orðin vinsælasta sýningin í Duus húsum ár hvert. Leikskólabörn bæjarins fjölmenntu í Duus hús þar sem hátíðin var sett. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri mætti með fiðluna sína og krakkarnir tóku saman nokkur lög sem höfðu verið þaulæfð. Þemað í ár er tröllin og fjöllin en börnin hafa að undanförnu skapað fjöldann allan af listaverkum sem verða til sýnis í Duus húsum til 22. maí. Duus Safnahús verða undirlögð undir myndlistarsýningar leik-,

grunn- og framhaldsskóla auk þess sem þar er einnig ljósmyndasýningin Óskir íslenskra barna sem byggir reynslusögum úr samtíma íslenskra barna sem hafa upplifað ofbeldi, vanrækslu, einelti eða fátækt og sýnir óskir barnanna um betra líf. Meðan á hátíðinni stendur verður frítt inn fyrir fullorðna í fylgd barna. Síðasta laugardag var svo boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir fjölskyldur í tilefni af hátíðinni. Þar voru fjölbreyttar listasmiðjur meðal annars múffuskreytingasmiðju, brúðugerð, tröllasmiðju, andlitsmálunarsmiðju og þrykksmiðju, fjölskyldujóga og tónlist auk þess sem þau Bárður og Gilitrutt frá leikhópnum Lottu komu í heimsókn og Fjóla tröllastelpa heilsaði upp á smáfólkið.

Fjör á fjölþjóðlegri fjölskylduhátíð Samtökin Móðurmál héldu fjölskylduhátíð í sal Myllubakkaskóla um þar síðustu helgi. Nú eftir áramót hafa samtökin boðið upp á móðurmálskennslu á nokkrum tungumálum fyrir tvítyngd börn. Á hátíðinni var mikið um dýrðir, boðið var upp á smárétti frá ýmsum löndum og farið í leiki. Þá lék Kjartan Már

Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, á fiðlu og brá á leik. Hingað til hefur ekki verið boðið upp á móðurmálskennslu fyrir tvítyngd börn á Suðurnesjum og hafa margir því sótt kennsluna til höfuðborgarsvæðisins. Kennslan gekk vel í vetur og voru nemendur 35 talsins. Starfið hefst svo aftur næsta haust.


fimmtudagur 12. maí 2016

15

VÍKURFRÉTTIR

Hjallastefnuskólinn Akur Hjallastefnuskólinn Akur auglýsir eftir körlum og konum til starfa, með leikog/eða grunnskólakennaramenntun. Einnig er óskað eftir fólki til starfa með aðra sambærilega menntun og/eða reynslu af starfi með börnum og ungmennum.

Ársreikningur Sandgerðisbæjar í takt við langtímastefnu

Jafnréttisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir í hugmyndafræði Hjallastefnunnar, öllum börnum til hagsbóta. Hæfniskröfur og viðhorf: • Hæfni í mannlegum samskiptum • Gleði og jákvæðni • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð • Frumkvæði, áræðni og metnaður • Brennandi áhugi fyrir jafnrétti • Stundvísi • Snyrtimennska

●●„Erum á góðri leið og lítum björtum augum til framtíðarinnar“, segir Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Ársreikningur Sandgerðisbæjar fyrir árið 2015 sýnir að vel hefur tekist að fylgja eftir langtímastefnu sem mörkuð var af bæjarstjórn fyrir rúmum fimm árum um að ná niður skuldum bæjarfélagsins, ná jafnvægi í rekstri og veita bæjarbúum á sama tíma góða þjónustu. „Hér hafa allir snúið bökum saman við að ná markmiðum okkar um viðsnúning í rekstri og skuldamálum. Það verkefni er langhlaup, við erum á góðri leið og lítum björtum augum til framtíðarinnar“, segir Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar, í tilkynningu á vef sveitarfélagsins. Rekstrarniðurstaða A og B hluta fyrir afskriftir, fjármagnsliði og óreglulega liði var jákvæð um 238 mkr. en neikvæð um 17 mkr. að teknu tilliti til framangreindra liða. Niðurstaðan er 40 mkr. betri en áætlun ársins gerði ráð fyrir. Heildartekjur ársins námu

1.716 mkr., rekstrargjöld námu 1.478 mkr. Handbært fé frá rekstri nam 196 mkr. Fjárfestingar námu 66 mkr. en árin á undan var litlu fé varið til fjárfestinga og nýframkvæmda. Framlegð ársins var 14% og veltufé frá rekstri nam 245 mkr. Afborganir langtímalána, vaxta og verðbóta námu 252 mkr. Lífeyrisskuldbindingar hækkuðu um 71 mkr. eða 40 mkr. umfram það sem áætlun gerði ráð fyrir. Skuldaviðmið í árslok nam 188 % fyrir A hluta bæjarsjóðs og B hluta stofnanir, en 133% þegar eingöngu er litið til A hluta bæjarsjóðs. Skuldahlutfallið hefur lækkað verulega ár frá ári en það var 201% fyrir A og B hluta árið 2014 og 227% árið 2013. Áætlað er að viðmiðum sveitarstjórnarlaga um skuldaviðmið og rekstrarjafnvægi verði náð árið 2019 sem er nokkru fyrr en langtímaáætlun frá 2012 gerði ráð fyrir.

Áhugasamir hafi samband við skólastjóra Akurs, Kristínu Kristjánsdóttur á akur@hjalli.is eða í síma 421 8310. Um framtíðarstarf er að ræða. Hlökkum til að fá umsókn frá þér!

Bátur vikunnar 9.–15. MAÍ

BAJA

Kjúklingur og beikon

599

Bæjarsjóður Sveitarfélagsins Garðs er skuldlaus ●●Bæjarsjóður í A- hluta ber engar ● vaxtaberandi skuldir við lánastofnanir

Heildareignir voru 2.666 milljónir og eiginfjárhlutfall 83,15%. Heildar skuldir og skuldbindingar A-og B hluta voru 519 milljónir. Bæjarsjóður í A- hluta ber engar vaxtaberandi skuldir við lánastofnanir, en í B- hluta eru vaxtaberandi skuldir við lánastofnanir alls 61 milljón. Skulda-

maribo-ostur, BBQ-sósa og

Bátur, vefja eða salat

chipotle-majónes

hlutfall samkvæmt ákvæðum Sveitarstjórnarlaga var 14,52% í árslok 2015. Í tilkynningu frá Magnúsi Stefánssyni, bæjarstjóra í Sveitarfélaginu Garði segir: „Bæjarstjórn lýsir ánægju með góða niðurstöðu ársreiknings, sem er jákvæðari en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun og felur í sér að efnahagslegur styrkur sveitarfélagsins er mikill. Bæjarstjórn vekur athygli á þeirri jákvæðu staðreynd að bæjarsjóður í A-hluta efnahagsreiknings ber engar vaxtaberandi skuldir við lánastofnanir og að skuldahlutfall A-og B hluta er aðeins 14,52% Bæjarstjórn vekur sérstaka athygli á því að samkvæmt ársreikningi hefur náðst sá mikilvægi áfangi að sveitarfélagið stenst jafnvægisreglu Sveitarstjórnarlaga um rekstrarniðurstöðu. Þar með stenst Sveitarfélagið Garður að fullu fjármálareglur Sveitarstjórnarlaga, bæði hvað varðar rekstrarniðurstöðu og skuldahlutfall“.

Stór bátur

Kjúklingur, beikon, rauðlaukur,

999 kr. 599 kr.

þú velur bát, vefju eða salat

PIPAR \ TBWA • SÍA

Bæjarstjórn samþykkti ársreikning Sveitarfélagsins Garðs fyrir árið 2015 á bæjarstjórnarfundi miðvikudaginn 4. maí sl. Rekstrarniðurstaða A-og B hluta skilaði 36,5 milljóna afgangi, en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 18,5 milljónum í afgang. Rekstrartekjur A-og B hluta voru alls 1.158 milljónir, en í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að tekjur yrðu 1.085 milljónir. Veltufé frá rekstri A- og B hluta var 154 milljónir, sem er 13,3% af heildartekjum og handbært fé frá rekstri nam 114 milljónum. Handbært fé jókst um 46 milljónir og var alls 336 milljónir í árslok 2015. Veltufjárhlutfall var 2,68.

kr.

HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ: NORÐLINGAHOLTI · GULLINBRÚ ÁLFHEIMUM · SÆBRAUT · MJÓDD GARÐABÆ · MOSFELLSBÆ

VF.IS Í NÝJUM FÖTUM

LANDSBYGGÐIN: BORGARNESI · AKRANESI AKUREYRI · REYÐARFIRÐI KEFLAVÍK · SELFOSSI · HELLU

quiznos.is

TÖLVUNNI

FYLGSTU MEÐ Í...

SNJALLSÍMANUM

SPJALDTÖLVUNNI


16

VÍKURFRÉTTIR

Ástkær dóttir, móðir, amma, systir og tengdamóðir,

Anna Dóra Combs, lést á landspítala Fossvogi 6. maí síðastliðinn. Útför fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 18. maí kl. 14:00. Aðstandendur, Þórdís Ingólfsdóttir, Eyrún A. Gestsdóttir, Þórdís H. Gestsdóttir, Inga Gestsdóttir, barnabörn og systkini.

Guðmundur H. Jóhannesson, Þórður Traustason,

Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og sonur,

Kristinn Rúnar Karlsson, Bogabraut 950, Reykjanesbæ,

lést á Landspítalanum í Fossvogi, fimmtudaginn 5. maí. Útförin frá Safnaðarheimili Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 17. maí kl. 13:00.

fimmtudagur 12. maí 2016

Viðsnúningur í rekstri Reykjanesbæjar ●●Hagræðing hefur skilað árangri, segir meirihluti bæjarstjórnar Reykjanebæjar. „Árið 2015 er fyrsta heila árið frá því að ný bæjarstjórn tók við völdum eftir kosningarnar 2014. Ársreikningur ársins 2015 sýnir mikinn viðsnúning í rekstri bæjarins frá árunum á undan“, segir í bókun meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á fundi hennar þegar ársreikningar 2015 voru samþykktir 3. maí sl. „Skatttekjur hafa aukist um 20,12% frá fyrra ári og heildartekjur bæjarsjóðs um 12.91%, en með B hluta fyrirtækjum hafa tekjur aukist um 8,86% frá fyrra ári. Þá hefur framlegð bæjarsjóðs breyst frá því að vera neikvæð í að vera 9,46% og ef B hluta fyrirtæki eru tekin með

er framlegðin 19,59% samanborið við 16,11% árið 2014. Það átak sem núverandi meirihluti bæjarstjórnar stóð fyrir til að hagræða í rekstri bæjarfélagsins hefur því skilað verulegum árangri. Þannig hefur skuldahlutfall bæjarsjóðs með B hluta fyrirtækjum lækkað úr 253,6% í 249,22% og skuldviðmið skv. reglugerð 502/2012 lækkað úr 232,67% í 230,53%. Þó verður að hafa í huga, að dregið hefur verið úr hvers konar viðhaldi, bæði gatna og annarra fasteigna til þess að ná þessari niðurstöðu. Það mun leiða til þess að útgjöld í framtíðinni í þeim þáttum verða þeim mun

meiri. Þá mun sú útsvarshækkun sem í gildi er hugsuð til skamms tíma, því enginn vilji er til þess að leggja meiri álögur á íbúa Reykjanesbæjar en annarra sveitarfélaga. Ljóst er að þau markmið sem sett hafa verið í viðræðum bæjaryfirvalda við kröfuhafa sem hafa verið samþykkt af meirihluta þeirra um að nauðsynlegt sé að þeir færi skuldir niður um 6.350 milljónir króna er forsenda þess að skuldaviðmiðið 150% náist á rekstrarárinu 2022.“ Guðbrandur Einarsson, Friðjón Einarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Kristján Jóhannsson, Gunnar Þórarinsson, Elín Rós Bjarnadóttir.

Svanlaug Halldórsdóttir, Kristrún Halla Kristinsdóttir, Aazis Freyr Svanlaugarson, Marzuk Ingi Svanlaugar, Karl G. Sævar og aðrir aðstandendur.

Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,

Carl Bergur Gränz

Málarameistari í Sandgerði lést á krabbameinsdeild Landsspítalans 30. apríl 2016. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðmundína Þ. Kristjánsdóttir Kristján Carlsson Gränz Carl Jóhann Gränz barnabörn.

Særós Pálsdóttir Heiða Björk Guðjónsdóttir

Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,

Guðmundur Kristinn Sigurðsson

Faxabraut 1. Keflavík frá Tjarnarkoti Innri Njarðvík er látinn Útför verður frá Ytri Njarðvíkurkirkju, föstudaginn 20. maí kl. 13:00. Sigurður Halldór Guðmundsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Hreinn Gunnar Guðmundsson, Gylfi Björgvin Guðmundsson, Harpa Sól Guðmundsdóttir, Gylfi Arnar Pálsson.

Tinna Ingvarsdóttir, Jónína Guðný Bogadóttir,

Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma , langamma og systir

Jóna Gunnarsdóttir,

Baugholti 12, Reykjanesbæ, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Reykjanesbæ þ. 9. maí sl. umvafin ástvinum sínum. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þ. 19. maí kl. 13:00. Gunnar V. Kristjánsson, G. Hulda Gunnarsdóttir, Einar P. Gunnarsson, D. Linda Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn, Óskar Gunnarsson,

Thor Sverrisson, Þorbjörg Óskarsdóttir, Jón Kr. Magnússon, Sólrún Mary Vest Joensen,

Loksins eru fjárfestingarnar að skila sér ●●segir minnihluti Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Eftir langvarandi tafir og áföll eru þær miklu fjárfestingar sem Reykjanesbær lagði í á árunum 2004-2009 loks að skila afrakstri. Vissulega hefur biðin verið mun lengri en við ætluðum og kostnaður af lántökum vegna fjárfestinga mun þyngri en til stóð. Engu að síður eru öll merki þess að nú séu fjárfestingarnar teknar að skila hreinum tekjum til baka. Afrakstur í formi betri menntunar og betra mannlífs er þó löngu farinn að skila sér. Skýr merki um auknar tekjur bæjarins eru á árinu 2015 og enn augljósari merki þess á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs. Marksækin áform bæjarstjórnar síðasta áratug lögðu grunn að tækifærum og blómstrandi mannlífi sem nú er að taka flugið, segir í bókun minnihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á fundi hennar þegar ársreikningar 2015 voru samþykktir 3. maí sl. Það er gott að ekki var farið eftir þeim stjórnmálaöflum sem töldu að jafna ætti allar eignir á fyrrum varnarsvæði við jörðu. Sala eigna á því svæði, Ásbrú, er talin munu nema yfir 10 milljörðum kr. á þessu ári. Yfir tvö þúsund íbúðum á svæðinu hefur nú ýmist verið breytt í hótel, nemendaíbúðir, starfsmannaíbúðir vegna flugvallarsvæðisins eða fjölskylduíbúðir. Útsvarstekjur eru að aukast verulega með tilkomu nýrra íbúa inn á svæðið, sem og auknar fasteignagjaldatekjur m.a. af gistirýmum.

Götur og lóðir í nýjum hverfum standa tilbúnar og umsóknum um lóðir og endurbætur á húsnæði rignir inn. Kostnaður vegna fjárhagsaðstoðar og félagslegrar aðstoðar hríðlækkar. Í Helguvík er loks nýtt kísilver að hefja starfsemi upp úr miðju ári og annað fylgir í kjölfarið. Þau skapa hundruð vel launaðra starfa. Hin gríðarlega aukning flugumferðar til og frá Íslandi nýtur góðs af því að nánast allt flugvélaeldseyti er flutt til landsins í gegnum Helguvík. Nú, þegar verkefnin í Helguvík eru loksins komin á fulla ferð, myndast langþráður grundvöllur fyrir fjárfesta að huga að þeim svæðum ofan Helguvíkur á milli hafnar og flugvallar, sem standa tilbúin og bærinn er eigandi að. Markaðsvirði þessa svæðis nemur um 4-5 milljörðum kr. en er hvergi skráð í bókum bæjarins. Þúsundir starfsmanna bætast við á Keflavikurflugvelli á þessu ári, ýmist vegna byggingarframkvæmda á flugvallarsvæðinu eða margvíslegra þjónustustarfa þar eða í tengslum við ferðaþjónustuna. Íbúum fjölgar hratt. Þeir koma inn í samfélag sem er hreinlegt, vel hirt, með fallega göngustíga í bænum og meðfram ströndinni, blómstrandi menningu og íþróttalíf, öflugustu leikog grunnskóla á landinu, fjölbrauta-

skóla og Keili sem miðstöð vísinda og fræða. Þeir koma inn í samfélag sem býður næga vinnu. Nú sem fyrr hefur rekstrarkostnaður Reykjanesbæjar verið á meðal þess sem lægst gerist hjá sveitarfélögum, þrátt fyrir vandaða þjónustu. Vert er að nefna að vel hefur tekist að halda kostnaði niðri á síðasta ári eins og ársreikningur ber með sér. Kostnaður af launum ber þó með sér talsverð umskipti á starfsmönnum sem áttu inni starfslokasamninga og umtalsverðan kostnað vegna uppsagna á starfsfólki og endurráðninga auk aðkeyptrar ráðgjafar meirihlutans vegna lánamála. Vonandi er það einungis fyrir liðið ár. Í heildina litið hefur verið vel haldið utan um rekstur bæjarins og eiga bæjarstjórn, bæjarstjóri og starfsmenn hrós skilið fyrir þá vinnu. Við sjálfstæðismenn hétum því að vinna vel með núverandi meirihluta að „sókninni“. Við samþykktum samhljóða fjárhagsáætlun síðasta árs og höfum staðið með meirihlutanum að flestum erfiðum ákvörðunum til að halda kostnaði niðri. Við heitum áframhaldandi stuðningi við sóknina. Það er í þágu íbúanna. Áfram Reykjanesbær! Böðvar Jónsson, Árni Sigfússon, Magnea Guðmundsdóttir, Baldur Guðmundsson.


fimmtudagur 12. maí 2016

VÍKURFRÉTTIR

Gullý Sig hélt skemmtilega formannsræðu

LÍFIÐ

SNÝST UM VÍÐI ●●Víðir Garði er 80 ára félag

Það var sannarlega líf og fjör þegar Víðismenn og konur komu saman síðasta laugardagskvöld til þess að fagna 80 ára afmæli félagsins í Garðinum. Blásið var til veglegrar veislu af tilefninu þar sem Garðbúar hvaðanæva að fjölmenntu á heimaslóðir. Guðlaug Sigurðardóttir formaður félagsins segir að mikið standi til á árinu og þegar hafði verið haldið upp á afmælið fyrir allra yngstu félagsmennina. Til stendur að fara jafnvel í blaðaútgáfu í tilefni afmælisins. „Fyrir mér er þetta nánast bara lífið sjálft. Heima hjá mér snýst allt um það að hlutirnir gangi upp hjá Víði. Ekki hjá fjölskyldunni, heldur Víði,“ segir Guðlaug og hlær. „Til þess að hlutirnir gangi upp þá þarf að halda vel á spöðunum bæði fjárhagslega og annað. Okkur hefur tekist það enda skuldum við engum neitt. Við erum reyndar mjög dugleg að fjárafla,“ bætir formaðurinn við. Þegar saga félagsins er rakin þá segir Guðlaug að tímabilið frá árinu 1982

Það var rífandi stemmning í Garðinum

til 1991 stand upp úr, en þá var sannkallað blómaskeið í sögu félagsins þegar karlaliðið í fótbolta lék í fjögur ár í efstu deild og til úrslita í bikar. „Ég þekki ekki annað en að lifa og hrærast í Víðisfjölskyldunni. Ég er alin upp á miklu Víðisheimili þar sem pabbi hefur bæði verið, þjálfari, formaður, leikmaður og fleira. Hringurinn heldur svo bara áfram þar sem ég er í raun að feta í hans fótspor.“

Skírðu strákinn Sigmar Víði

Meistaraflokkur karla vann sannarlega mikil afrek á þessum árum en stundum vill það gleymast að konurnar gáfu þeim ekkert eftir. „Það hefur stundum gleymst í umræðunni að árið 1982 unnum við í kvennaliðinu 2. deildina og lékum í efstu deild eftir það. Það vildi svo skemmtilega til að þann dag, 4. september unnu strákarnir sig upp í 2. deild einnig. Þannig að sá dagur er sá stærsti í sögu félagins held ég að megi fullyrða.“ Föðursystir Guðlaugar fæddi dreng

þann mikla sigurdag og hlaut hann ansi viðeigandi nafngift. „Hún beið fram yfir úrslit og þá kom drengurinn og var skírður Sigmar Víðir, ber nafn með rentu.“ Það snýst allt um fótboltann hjá Garðbúum. Liðið í ár er ungt og skipað fjölmörgum heimamönnum. „Stefnan er tekin í 2. deild. Það er mikill hugur í okkur öllum í ár.“ Guðlaug segist sannarlega vonast eftir nýju blómaskeiði þannig að núverandi leikmenn fái að upplifa þá sælu sem fylgir því að vinna deildina. Dagskráin var glæsileg á laugardag en Maggi á Réttinum sá um að metta fólkið með gómsætum veitingum. Á meðan var boðið upp á gott grín frá veislustjóranum Birni Braga auk þess sem bræðurnir Jón og Friðrik Dór Jónssynir trylltu lýðinn með gamanmálum og söng. Það var svo Buffið sem sá um að fá fólk á dansgólfið undir lok kvölds. Mun fleiri myndir frá kvöldinu má sjá á heimasíðu okkar vf.is.

Gullaldardrengir í öllu sínu veldi.

Betri helmingur gulldrengja.

17


18

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 12. maí 2016

ÍÞRÓTTIR

ATVINNA Bílastofan alhliðabílaviðgerðir og Citycar bílaleiga í Njarðvík óska eftir hressu og jákvæðu starfsfólki í framtíðarstarf. Viðkomandi þarf að vera reglusamur, stundvís og tilbúin í ýmis verkefni. Upplýsingar í síma 421-1251, 771-4222, 861-2319 Netfang: info@bilastofan.is

Hörður Axel ætlar að spila í Sláturhúsinu ef hann verður á Íslandi. Ljósmynd Eyþór Sæmundsson.

HELMINGSLÍKUR Á AÐ HÖRÐUR SPILI HEIMA ●●Er orðinn mikil Keflvíkingur - Kitlaði að fara í Njarðvík

Keflvíkingar hafa klófest einn heitasta bitann á markaðnum í körfuboltanum, eftir að landsliðsmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið í vikunni. Það er þó ennþá óvíst hvort Hörður muni leika með liðinu en hann hefur ekki útilokað áframhaldandi atvinnumennsku.

LAUS STÖRF VIÐ GERÐASKÓLA Gerðaskóli óskar eftir að ráða áhugasama grunnskólakennara og annað starfsfólk til starfa næsta skólaár, 2016-2017. Alls eru 207 nemendur í 1.-10. bekk í Gerðaskóla. Sjá nánar um skólann á www.gerdaskoli.is. Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af kennslu og starfi með börnum. Gildi skólasamfélagsins í Garði eru: Árangur, virðing, gleði, leikur, sköpun, ábyrgð og lögð er áhersla á þau í starfi skólans. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að setja sig inn í starfshætti skólans og geta hafið störf eigi síðar en 15. ágúst. Grunnskólakennara vantar í eftirfarandi störf: Umsjónarkennslu á yngsta stig Upplýsinga- og tæknimennt Heimilisfræði Einnig vantar: Þroskaþjálfa (100%) Náms- og starfsráðgjafa (50%) Skólaliða Stuðningsfulltrúa (80%) Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2016 Nánari upplýsingar veitir Jóhann Geirdal skólastjóri johann@gerdaskoli.is og Ragnhildur Einarsdóttir, aðstoðarskólastjóri ragnhildur@gerdaskoli.is.

„Maður er í rauninni orðinn ansi mikill Keflvíkingur eftir að hafa verið hérna nánast stanslaust í níu ár. Ég er mjög sáttur við að hafa skrifað undir þrátt fyrir að það sé klásúla í samningum um að ég fari út ef það gerist eitthvað fyrir 1. október,“ segir Hörður sem er með umboðsmann á sínum snærum sem skoðar öll tilboð sem koma erlendis frá. Hann er þó ekki tilbúinn að vera í hvaða aðstæðum sem er. „Ef ég vildi vera úti þá gæti ég verið búinn að skrifa undir einhvers staðar. Ef það kemur eitthvað mjög gott þá hoppa ég á það en ég nenni ekki að standa í þessu harki aftur,“ bætir bakvörðurinn öflugi við. Hörður hefur verið að spila í mörgum bestu deildum Evrópu undanfarin ár og hefur metnað til þess að spila í hæsta styrkleikaflokki. „Að labba frá því er dálítið skrýtið, sérstaklega þegar maður er 27 ára. Ég er þó ekki

alveg genginn í burtu, ef eitthvað gott kemur þá fer ég aftur.“ Voru önnur lið sem höfðu samband? „Það voru einhver skilaboð þar sem ég var spurður um hvort ég hefði áhuga en það fór ekkert lengra en það,“ segir Hörður sem hefur sínar ástæður fyrir því að velja Keflavík. „Mér leið rosalega vel í Keflavík og allir Keflvíkingar tóku mér mjög vel. Það eru vissir menn í Keflavík sem

Ég er kannski það hrokafullur að þegar ég bætist við hvaða lið sem er á Íslandi þá held ég að það sé komið í titilbaráttu mér finnst ég skulda aðeins meira en ég gerði, eins og til dæmis Einar Einars sem hjálpaði mér gífurlega mikið. Ég á Keflvíkingum mikið að þakka þar sem þeir hjálpuðu mér að gera það sem ég gerði í atvinnumennsku.“

Flakkið tekur sinn toll

Í fyrra flakkaði Hörður ásamt Hafdísi konu sinni á milli þriggja liða en

ATVINNA Veitingahúsið Ráin óskar eftir framreiðslufólki.í sal og á bar. Í boði er fullt starf eða kvöld og helgar vinna. Ef þið hafið áhuga endilega hafið samband við Vignir Ara í síma 421-4601 eða á rain@rain.is

hann segir það taka nokkuð á. „Þetta tekur á allt, sálina og annað. Ég er auðvitað ekki einn í þessu heldur. Þegar við erum búin að koma okkur fyrir á einum stað þá þurfum við stundum að rífa okkur upp aftur. Þetta er búið að vera svona. Að koma heim er líka gott upp á lífið að gera. Ég er til dæmis varla búinn að ná einu fjölskylduboði undanfarin fimm ár og það tekur sinn toll líka.“

Kominn tími á velgengni í Keflavík eftir mögur ár

Keflvíkingar voru gríðarlega öflugir fram eftir tímabili í fyrra en svo fór að halla undan fæti þegar leið á. Hörður segir að með hans tilkomu séu Keflvíkingar líklegir til þess að blanda sér í titilbaráttu. „Ég er fyrst og fremst að fara í klúbbinn Keflavík. Liðið var mjög gott fyrir áramót en svo fataðist þeim flugið. Þetta er flottur leikmannahópur sem er vel hægt að byggja á. Það eru búin að vera mögur ár að undanförnu og það er kominn tími á að gera eitthvað almennilegt í Keflavík. Ég er kannski það hrokafullur að þegar ég bætist við hvaða lið sem er á Íslandi þá held ég að það sé komið í titilbaráttu. Ég geri kannski það óraunhæfar kröfur á sjálfan mig en það er það sem hefur fleytt mér þetta langt í þessu.“ Hörður spilaði eitt tímabil með Njarðvík og er giftur inn mikla Njarðvíkurfjölskyldu. „Ef ég á að vera alveg fullkomlega hreinskilinn þá kitlaði það að fara í Njarðvík. Sérstaklega eftir að Daníel kemur inn sem þjálfari þá kitlaði það að heyra í þeim, en við erum miklir vinir. Svo hefði verið gaman að spila með Loga Gunnars sem var ein af mínum fyrstu fyrirmyndum í körfubolta. Ætli ég sé samt bara ekki orðinn það mikill Keflvíkingur.“ Það er erfitt að skjóta því föstu að Hörður muni leika hérlendis en það myndi sannarlega gleðja íslenska körfuboltaaðdáendur. „Það þyrfti ansi margt að spinnast saman til þess að ég myndi fara út aftur, sem er þó samt möguleiki. Í fullri hreinskilni þá myndi ég segja að það séu helmingslíkur á því að ég verði í Keflavíkurbúning á næsta tímabili. Ef það gerist þá geri ég það mjög glaður og fullur tilhlökkunar.“


fimmtudagur 12. maí 2016

19

VÍKURFRÉTTIR

Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is

Reykjanesið fullt af reiðhjólum ■■Geysis Reykjanesmótið í götuhjólreiðum fór fram í blíðviðri síðasta sunnudag, en 3N þríþrautardeild Njarðvíkinga, stóð fyrir mótinu líkt og undanfarin ár. Bæði var keppt í 64 km og 32 km vegalengdum og var þátttaka mjög góð. Alls mættu um 320 manns til leiks en mótið er orðið mjög eftirsótt meðal hjólreiðafólks víðs vegar að.

Alveg gjörsamlega ruglað ●●Framtíð Arnórs Ingva skýrist líklega fyrir EM Lífið hefur breyst talsvert hjá knattspyrnukappanum Arnóri Ing va Traustasyni síðan EM-hópur íslenska landsliðsins var tilkynntur nú á mánudag. Arnór, sem leikur með Norrköping í Svíþjóð, fékk tíðindin sjálfur tæpum klukkutíma áður en hópurinn var tilkynntur á blaðamannafundi. Hann var á Skype við Lúkas félaga sinn þegar sms skilaboð frá starfsmanni KSÍ kom. „Ég þekki númerið á símanum og ég kom ekki upp orði, var gjörsamlega kjaftstopp, Þetta var alveg gjörsamlega ruglað og við Lúkas öskruðum af gleði,“ segir Arnór í samtali við blaðamann Víkurfrétta. Hann var augljóslega búinn að bíða spenntur eftir þessum degi en það er ekki ýkja langt síðan Arnór kom fyrst til greina í lokahópinn. Hann hefur til að mynda ekki ennþá leikið A-landsleik á Laugardalsvelli.

Ekkert gefið þrátt fyrir mörk

„Ef ég lít aftur í tímann þá náði ég ekki að sýna nógu mikið þegar ég fékk séns í leikjunum í nóvember. Aftur í janúar fæ ég tækifæri og þá var ég ekkert alltof ánægður með sjálfan mig. Í þessum tveimur leikjum sem ég spila svo í mars þá taldi ég mig eiga möguleika eins og hver annar. Eftir að ég skoraði tvö mörk þá fer fólk að segja að ég sé klár í hópinn en það virkar bara ekki þannig. Það er svo miklu meira sem spilar inn í. Maður reyndi að loka á allt saman og bíða bara eftir þessum merka degi.“ Arnór segir að það hafi truflað hann örlítið að heyra þessa umræðu en hann reyndi að forðast hana algjörlega. „Það tók tíma að blokka þessa utanaðkomandi umræðu. Mér finnst það mjög óþægilegt og ég reyni að forða mér út úr þeim samræðum eins fljótt og auðið er.“

Öskraði þegar hann sá Ingvar inni

Það kom kannski mörgum á óvart að Njarðvíkingurinn Ingvar Jónsson var einnig valinn í hópinn en hann hefur ekki fengið mörg tækifæri milli stanganna þrátt fyrir að vera ítrekað í hópnum. „Ég öskraði þegar ég sá að Ingvar var í hópnum! Það er alveg geggjað. Ég var nokkuð viss um að Gunnleifur fengi hans sæti,“ viðurkennir Arnór og er augljóslega í skýjunum fyrir hönd félaga síns.

Enn óvíst með framtíðina

Arnór gat ekki tjáð sig um hvort hann myndi spila í Vínarborg á næsta tímabili en hann segir að framtíð sín muni skýrast núna fyrir Evrópumótið. Lið Rapid Vín er sagt tilbúið að greiða 2 milljónir evra fyrir kappann en það mun skýrast fljótlega. Arnór vill helst að framtíð sín sé skýr fyrir keppnina en hann segist vera búinn að hugsa sér næstu skref á sínum ferli.

Sonur og EM farseðill hjá Ingvari ●●„Ein af ótrúlegri stundum sem ég hef upplifað,“ segir EM-farinn og markvörðurinn Ingvar Jónsson Njarðvíkingurinn og markvörðurinn Ingvar Jónsson var að spila í norsku 1. deildinni sama dag og EM landsliðshópur Íslands var valinn og því var dagurinn mjög sérstakur. „Það róaði mig mikið að fá sms skilaboð áður en þetta var tilkynnt í þessu dramatíska myndbandi á fundinum,“ segir Ingvar sem fylgdist með útsendingunni á hóteli þar sem hann undirbjó sig fyrir leik. Hann var rétt að koma sér niður á jörðina eftir tíðindin þegar blaðamaður náði af honum tali morguninn eftir.

Bjóst allt eins við þessu

„Þetta var ein af ótrúlegri stundum sem ég hef upplifað, magnað að sjá það svart á hvítu að maður sé að fara,“ segir Ingvar sem svífur um að bleiku skýi í Noregi um þessar mundir enda eignaðist hann son fyrir tæpum tveimur vikum. „Það er nóg af stórum stundum á síðustu vikum. Það má segja að lífið gerist ekki mikið betra en þetta.“ Í upphafi atvinnumannaferilsins gekk Ingvar til liðs við Start en var lánaður þaðan til Sandnes. Hann var svo keyptur við b-deildarliðsins Sandefjord þar sem hann er að finna sig vel.

Eftir stóru fréttirnar varðandi Evrópumótið átti hann stórleik, þar sem hann var maður leiksins og hélt hreinu. Hann er á því að hann hafi bætt sig mikið frá því að kom til félagsins. „Mér fannst ég eiga mikinn séns og jafnvel meiri en aðrir héldu. Ég bjóst allt eins við þessu þannig séð. Mér finnst ég hafa staðið mig vel í síðustu landsliðsverkefnum og þegar ég hef fengið tækifærin þá finnst mér það hafa gengið vel. Þrátt fyrir að hafa ekki verið að spila þá hef ég staðið mig vel á æfingum og sýnt að ég sé að bæta mig mikið.“

Klár ef kallið kemur

Þrír markverðir eru í hópnum og ljóst að Hannes Halldórsson verður fyrsti kostur. Ingvar og Ögmundur Kristinsson verða svo til taks ef eitthvað bjátar á. „Ögmundur hefur verið að spila talsvert þegar Hannes er meiddur þannig að það lítur út fyrir að hann sé næsti kostur. Maður veit samt aldrei enda er þetta fljótt að breytast í fótboltanum. Hannes er augljós fyrsti kostur og á það skilið enda búinn að vera frábær með landsliðinu. Ef eitthvað kemur samt upp á þá veit maður aldrei. Ég hugsa bara að ég þurfi að

sýna að ég sé nóg góður til þess að eiga heima í þessu liði. Ef ég fæ kallið þá verð ég 100% klár.“ Brösótt gengi framan af í atvinnumennsku hefur líklega aftrað framgangi Ingvars með landsliðinu. Hann er þó bjartsýnn og hvergi af baki dottinn. „Ég var frekar ósáttur með hvernig þetta byrjaði hjá Start. Ég sá í hvað stefndi þar sem þjálfarinn og hinn markvörðurinn höfðu starfað saman áður í öðru liði. Mér fannst ekki sömu möguleikar fyrir okkur báða. Þetta var í fyrsta skipti á ferlinum þar sem ég var ekki að spila og ég kannski tæklaði það ekkert allt of vel. Þetta var lærdómsríkt fyrir mig enda er fótboltaferilinn ekki bara dans á rósum. Ég er núna hjá besta klúbbnum í 1. deild og sé það fyrir mér að vera kominn upp í efstu deild á næsta tímabili.“ Ingvar hugsaði ekki til þess að koma heim í íslensku deildina. „Ég hafði hugsað um atvinnumennsku frá því að ég var strákur og var ekki að fara að gefast upp á því eftir eitt erfitt tímabil. Mig langar að gefa þessu séns þar sem ég veit að ég hef fulla burði í að verða ennþá betri í góðri deild á Norðurlöndum.“

Ingvar er aðeins 26 ára en að þykir ekki mikill aldur fyrir markmann. „Ég segi alltaf að það sé eins og tvítugur framherji,“ segir Ingvar og hlær við. „Maður getur átt tíu góð ár eftir í atvinnumennsku,“ bætir hann við.

Magnað að Njarðvík eigi tvo uppalda á EM

Ingvar var að vonum ánægður að sjá Arnór Ingva í hópnum en þeir

ólust báðir upp í yngri flokka starfi Njarðvíkur. „Hann er bara Njarðvíkingur, þrátt fyrir að Keflavík hafi hjálpað honum mikið. Ég myndi nú halda það að það sé ansi magnað að klúbbur eins og Njarðvík eigi tvo fulltrúa í hópnum. Það er hálf ótrúlegt og segir mikið til um yngriflokkastarfið og þeirra þjálfara sem voru að þjálfa okkur á þeim tíma.“


Mundi

Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

Taka United Silicon og Thorsil ekki við flugeldasýningu Ljósanætur?

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

Grindavík og Keflavík áfram í bikarnum

twitter.com/vikurfrettir

instagram.com/vikurfrettir

Tröppur og stigar

●●Njarðvíkingar og Þróttarar úr leik

fyrir framkvæmdafólk

■■Önnur umferð í Borgunarbikar karla í fótbolta fór fram í vikunni. Suðurnesjaliðin áttu misjöfnu gengi að fagna og féllu tvö þeirra úr leik. Grindvíkingar lögðu Örninn 0-1 með marki frá Alexander Veigari Þórarinssyni. Keflvíkingar sigruðu Skallagrím í Borgarnesi 0-2 þar sem Sigurbergur Elísson og Daníel Gylfason sáu um markaskorun. Njarðvíkingar töpuðu gegn Selfyssingum 1-2 eftir að hafa náð 0-1 forystu þegar Theodór Guðni Halldórsson skoraði úr víti í fyrri hálfleik. Sigurmark Selfyssinga kom sex mínútum fyrir leikslok. Þróttarar þurftu að sætta sig við 0-1 tap á heimavelli gegn Gróttumönnum.

A015-105 Áltrappa 5 þrep

16.790

LFD 90AL70x33x100 cm

6 þrepa 19.750,7 þrepa 21.730,-

9.990

A031-206 6 þrep

22.990 9 þrepa 32.990,11 þrepa 39.520,-

A0118-104 4 þrep

10.900 6 þrepa 13.990,-

GOTT ÚRVAL AF TRÖPPUM FYRIR IÐNAÐARMANNINN

RLA-05 Áltrappa 5 þrep, tvöföld

6.590 6 þrepa 7.790,7 þrepa 8.990,-

San-SM-RLB02 stubbastækkari

3.550

21.890

Ljósmynd: Stuðningsmenn Keflavíkur FC.

Ath. mynd af 2x7

Kvennaliðin áfram

CLA-403 Fjölnota trappa með palli stigi/pallur 4x3 þrep

33.900

16.890 Áltrappa 3 þrep - verð frá

3.990

Áltrappa 4 þrep 4.940 5 þrep 6.590 6 þrep 6.990 7 þrep 7.990

Uppfylla EN:131 staðalinn

■■Bæði Grindvíkingar og Keflvíkingar unnu 0-2 sigur á andstæðingum sínum í Borgunarbikar kvenna í fótbolta. Grindvíkingar sigruðu Fjölni í Grafarvogi með mörkum frá Önnu Þóru Guðmundsdóttur og Marjani Hing-Glover, en mörkin komu undir lok leiks. Keflvíkingar lögðu lið Skínandi á útivelli sömuleiðis, með mörkum frá Birgittu Hallgrímsdóttur úr víti í fyrri hálfleik og Anítu Lind Daníelsdóttur í upphafi síðari hálfleiks. Bæði lið eiga leik á útivelli í næstu umferð. Keflvíkingar gegn Álftanesi á meðan Grindvíkingar heimsækja Aftureldingu.

TVÖFALDUR STIGI Stigi TIA-LSC380AL1 með reipi 361-610cm

LLA-214 PRO álstigi/trappa 2x14 þrep

LLA-112 Álstigi 12 þrep 3,38 m

LLA-211 - BAR PRO álstigi/trappa 2x11 þrep 3,11-5,34 m

8.390 10 þrep 7.490

16.990

SAN-SM-CLE206 Fjölnota pallur/trappa

FIMMTUDAGURINN 12. MAÍ KL. 19:00 Lokahátíð í Skapandi starfi, leiklistar - og söngstarfi kirkjunnar. Þátttakendur koma fram í söng og leik í Kirkjulundi. Allir velkomnir. SUNNUDAGURINN 15. MAÍ KL. 11:00 Hátíðarguðsþjónusta á hvítasunnudag í Kirkjulundi, Keflavíkurkirkju. Prestur er Erla Guðmundsdóttir. Organisti er Arnór Vilbergsson. Kór Keflavíkurkirkju syngur. ÞRIÐJUDAGURINN 17. MAÍ KL. 20:00 Vortónleikar Vox Felix í Kirkjulundi, Keflavíkurkirkju. Aðgangseyrir 2000 kr. FIMMUDAGURINN 19. MAÍ KL. 20:00 Vortónleikar Kórs Keflavíkurkirkju í Kirkjulundi, Keflavíkurkirkju. Aðgangseyrir 1000 kr. Kaffi í boði.

17.990

LLA-308 PRO álstigi 3x8 þrep 2,27-5,05 m

pallur fylgir

18.990 Reykjavík

Kletthálsi 7

Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16

Reykjanesbær

Fuglavík 18

Opið virka daga kl. 8-18

Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

Neytendur athugið! Múrbúðin selur allar vörur sínar á lágmarksverði fyrir alla, alltaf. Gerið verð- og gæðasamanburð!

FYRSTI HEIMALEIKUR SUMARSINS! HAMBORGARAR FYRIR LEIK OG SVALI FYRIR BÖRNIN.

NETTÓVELLI, LAUGARDAGINN 14. MAÍ, KL. 14:00.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook