Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001
Kræsingar & kostakjör
Súpa dagSinS
398kr
Súpubrauð
19kr/stk
Salatbarinn
549kr
tilboð Súpa, brauð og Salat 798kr
vf.is
F IMMTUdagur inn 2 3 . maí 2 0 13 • 2 0. tö lubla ð • 34. á rga ngur
n Hættulegar aðstæður á vinsælum ferðamannastað
Eldur í bátasmiðju á Ásbrú
E
ldur kom upp í bátasmiðju á verktakasvæðinu á Ásbrú seint á þriðjudagskvöld. Sjálfvirkt slökkvikerfi er í húsnæðinu og hafði það slökkt nær allan eld þegar slökkvilið Brunavarna Suðurnesja kom á vettvang. Þegar komið var að húsinu seint á þriðjudagskvöld vaknaði strax grunur um að brotist hafi verið inn í húsnæðið því útihurð hafði verið spennt upp. Því er m.a. rannsakað hvort eldur hafi verið borinn að byggingunni. Ekki er ljóst hversu mikið tjónið er en þó er ljóst að sjálfvirka slökkvikerfið kom í veg fyrir að stórbruni yrði í húsinu. VF-mynd: Hilmar Bragi
Bækur í stað peninga að Tjarnargötu 12
S
FÍTON / SÍA
tór hluti Bókasafns Reykjanesbæjar hefur verið fluttur frá Hafnargötu 57 að Tjarnargötu 12. Næstu dagar og vikur fara í að koma safninu fyrir en formleg opnun hússins er áætluð 11. júní, á afmælisdegi Reykjanesbæjar. Með þessum flutningi mun kjarnaþjónusta Reykjanesbæjar verða öll á einum stað í Ráðhúsinu.
������� ��������� � e���.��
I FYR
LLA
RA
V
alahnjúkur á Reykjanesi er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Fjölmargir leggja leið sína upp á hnjúkinn til að njóta útsýnis út á hafið og yfir Reykjanesið. Aðstæður á Valahnjúk eru hins vegar varasamar en merkingar sem vara við hættulegum aðstæðum skortir. Ljósmyndari Víkurfrétta náði meðfylgjandi mynd sem sýnir fífldirfsku ferðamanna á bjargbrúninni. Myndin var tekin sama dag og snarpir jarðskjálftar gengu yfir Reykjanesið. „Þetta er stórhættulegt en ekki í fyrsta skipti sem maður sér svona glannaskap þarna. Valahnúkur er úr veiku móbergi sem sífellt er að molna niður og brúnirnar þarna eru stórhættulegar. Einn snarpur skjálfti í skjálftahrinunni sem var þarna á dögunum hefði alveg getað verið endalokin fyrir þennan á brúninni. Hvers vegna menn hafa ekki sett upp aðvörunarskilti þarna, eins og við Hafnaberg, skil ég ekki. Vonandi þarf ekki banaslys til að svo verði,“ segir leiðsögumaður á Suðurnesjum í samtali við blaðið.
EIN STÆRSTA TÓNLISTARHÁTÍÐ LANDSINS
5. - 9. JÚNÍ Miðasala hjá og www.keflavikmusicfestival.com
Fífldirfska á Valahnjúk Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
Höfum mikið af eignum á skrá, víða um land. Skoðið vefinn okkar:
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
2
fimmtudagurinn 23. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR
FRÉTTIR
UMHVERFISSJÓÐUR Umhverfis-og skipulagssvið Reykjanesbæjar auglýsir eftir umsóknum í Umhverfissjóð 2013 Sjóðurinn veitir árlega styrk, fyrir hönd bæjarstjórnar, verkefnum sem með jákvæðum hætti stuðla að bættu umhverfi í Reykjanesbæ. Í umsókn þarf að koma fram hver er tengiliður verkefnis. Reglur umhverfissjóðs er að finna á www.reykjanesbaer.is Tekið er við umsóknum í gegnum www.mittreykjanes.is eða hjá þjónustuveri Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12, til 1. júní 2013.
NJARÐVÍKURSKÓLI
ATVINNA Óskað er eftir kennara til starfa á næsta skólaári til dönskukennslu á mið- og unglingastigi. Menntunar og hæfniskröfur: Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla Hæfni í mannlegum samskiptum. Umsóknarfrestur er til 6. júní 2013 Nánari upplýsingar gefur Ásgerður Þorgeirsdóttir skólastjóri í s. 420 3000/863 2426 eða á netfangið: asgerdur.thorgeirsdottir@njardvíkurskoli.is Sækja skal um starfið rafrænt á vef Reykjanesbæjar. http://www.reykjanesbaer.is/stjórnkerfi/laus-storf
TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR
SKÓLASLIT
Skólaslit verða í Stapa, Hljómahöllinni, í dag fimmtudaginn 23. maí kl.18.00. Afhending áfangaprófsskírteina og vitnisburðar vetrarins. Íslandsbanki veitir hin árlegu „Hvatningarverðlaun.“ Fjölbreytt tónlistaratriði. Allir velkomnir Skólastjóri
NESVELLIR Léttur föstudagur 24.maí kl. 14:00 Kór Holtaskóla Danssýning Allir hjartanlega velkomnir
n Reykjanesbær og Sveitarfélagið Garður:
Fer álverið í Helguvík í gang? „Ef menn einhenda sér í að leysa það sem út af stendur getur allt verið komið á fulla ferð síðar á árinu.“ segir Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls.
N
orðurál hefur lagt 15 milljarða króna til byggingar álverksmiðju í Helguvík en það er þó aðeins lítill hluti heildarkostnaðarins. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls segir orku fyrir hendi og hægt sé að afgreiða það mál, „vilji er allt sem þarf “ segir hann í viðtali í nýjasta hefti Frjálsrar Verslunar. Gerðir voru samningar árið 2007 við Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Rykjavíkur en síðan hefur ýmislegt gengið á þar sem bankahrun skipar efsta sæti. Ragnar segir að hjá Norðuráli sé allt tilbúið um leið og grænt ljós fáist á framkvæmdina. Hann er ekki ánægður með ýmsar stjórnvaldsákvarðanir og segir að slík afskipti hafi tafið fyrir. Ragnar bendir einnig á að Hitaveita Suðurnesja sé búin að ganga tvisvar í gegnum eigendaskipti um leið og félaginu hafi verið skipt upp í tvö félög. „Allt svona tefur og tekur athygli frá uppbyggingu. Betra hefði verið að upprunalegir eigendur hefðu komið verkefninu af stað áður en þeir seldu“. Ragnar segist vongóður um að það sjái til sólar síðar á þessu ári, það hafi verið unnið heilmikið í þessum málum undanfarna mánuði og misseri. „Norðurál er tilbúið fyrir sitt leyti að klára verksmiðjuna og hefur notið góðs stuðnings frá móðurfélaginu Century Aluminium, en það vantar bara staðfestingu á orkuafhendingu. Ef menn einhenda sér í að leysa það sem út af stendur getur allt verið komið á fulla ferð síðar á árinu.“ Fyrstu tveir áfangarnir í Helguvík eru um 180 þúsund tonn samtals og nota rúmlega 300 MW. Ragnar bendir á að samkvæmt nýlegum fréttum gæti verið til ónýtt orka í landinu sem nemur 100 til 200 MW eða um helmingur þess sem þarf. Þetta sé orka sem hægt er að selja strax án nokkurrar fjárfestingar. „Það þarf því ekki mikið til að komast á beinu brautina, af nógu er að taka fyrir þetta verkefni og ýmiss önnur verkefni samkvæmt nýsamþykktri rammaáætlun,“ segir Ragnar. Til marks um þá óvissu sem hefur verið sköpuð í samskiptum við ríkisvaldið nefnir Ragnar fyrstu hugmyndir um kolefnis- og raforkuskatt. Þær útfærslur sem þar voru kynntar hefðu haft í för með sér fimm milljarða króna gjaldtöku á Norðurál eitt og sér. Ragnar
segir að það séu vinnubrögð sem ekki séu boðleg. Nú liggja fyrir öll leyfi og samþykktir vegna 250 þús. tonna álvers í Helguvík, sem skipt hefur verið í þrjá áfanga í áætlunum Norðuráls. Eins og áður segir strandar fyrst og fremst á að orkusamningar verði uppfylltir. Ef ráðist er í að byggja tvo áfanga, eða 180 þús. tonna álver, má ætla að um 5 þús. ársverk skapist á um það bil fjórum árum. Það er þá vegna byggingar álversins, virkjana og lína. Af þessum framkvæmdum skapast síðan 1.000 varanleg störf, bæði bein og óbein, samkvæmt útreikningum Norðuráls. Hér er því mikið í húfi, ekki aðeins fyrir Norðurál, heldur einnig atvinnuástand á Suðurnesjum og landinu öllu. Norðurál rekur álver á Grundartanga en þar starfa 600 manns. Verkalýðsleiðtogi á Akranesi sagði á fundi í Stapa fyrir kosningarnar að atvinnuleysi væri aðeins 3% á Vesturlandi á meðan það væri 9-10% á Suðurnesjum. Verkalýðsleiðtoginn sagði að væri þetta staðan á hans svæði myndi hann kalla til fundar og finna til aðila til að gera það sem þyrfti að gera til að klára málið. Heildarverðmæti álsins sem framleitt var á Grundartanga á síðasta ári var nálægt 80 milljörðum króna. Launakostnaður nam á sama tímabili hjá fyrirtækinu 8,7 milljónum króna að meðaltali á starfsmann með launatengdum gjöldum. Það jafngildir um 615 þús. krónum á mánuði en það er talsvert hærra en á almennum vinnumarkaði en meðallaun þar voru 510 þús. kr. á síðasta ári. Innlendur kostnaður Norðuráls er um 25 milljarðar króna á ári en í þeirri tölu eru laun, orka og aðkeypt þjónusta. Þar af er keypt þjónusta af innlendum fyrirtækjum fyrir um 10 milljarða króna. Ragnar segir það stefnu fyrirtækisins að vera góður þegn í samfélaginu og reynt hafi verið að ráða starfsfólk úr nærsamfélaginu. Á Grundartanga komi til að mynda 80% starfsmanna af svæðinu allt í kring. Þá sé félagið í góðu sambandi við verktaka á svæðinu og komi myndarlega að stuðningi við íþróttir, menningu og félagslíf. Ítarlegt og mjög fróðlegt viðtal er við Ragnar í Frjálsri Verslun.
Lögregla kölluð til vegna ruslfæðis
U
mhyggja fólks hvert fyrir öðru getur náð svo langt að lögregla sé kölluð til, þyki önnur úrræði ekki ganga eftir. L ögreg lan á Suðurnesjum var nýverið kvödd á heimili í umdæminu vegna þess að eiginkonan kvaðst vera orðin langþreytt á mataræði eiginmannsins. Hún hefði ítrekað bent honum á að pizzur, brauð og ruslfæði væru að gera honum mikinn óskunda, heilsufarslega séð. Hún kvaðst enn fremur elda fyrir hann heilsumat, sem hann fúlsaði ævinlega við. Maðurinn kvaðst langþreyttur á afskiptum konu sinnar í þessum efnum. Hann hefði engan áhuga á grænum pizzum. Lögregla ræddi við fólkið og bjó svo um hnútana að samkomulag komst á.
Rukka fyrir rafmagn á tjaldsvæðum í Garði B æjarráð Sveitarfélagsins Garðs hefur samþykkt samhljóða tillögu bæjarstjóra að innheimt verði sólarhringsgjald vegna notkunar á rafmagni á
tjaldsvæðum Sveitarfélagsins Garðs. Sólarhringsgjald sumarið 2013 verði 500 krónur. Sem fyrr verði ekki innheimt gjald vegna tjaldsvæðis.
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 23. maí 2013
FRÁBÆR ÁRANGUR
EFTIR NÁM Í KEILI
Fida Abu Libdeh flutti til Íslands frá Palestínu 16 ára gömul. Æðsti draumur hennar var að mennta sig, en fyrir innflytjanda með takmarkaða íslenskukunnáttu var erfitt að fóta sig í íslensku framhaldsskólakerfi.
Á Háskólabrú Keilis fann hún nýtt tækifæri til að halda menntun sinni áfram og að henni lokinni fór hún í háskólanám hjá Keili í orku- og umhverfistæknifræði. Fida stofnaði fyrirtækið GeoSilica Iceland ehf. ásamt Burkna Pálssyni og fyrirtækinu Ögnum ehf. í framhaldi af lokaverkefnum þeirra í orku- og umhverfistæknifræðinámi Keilis. Markmið þess er að vinna hágæða kísil-heilsuvörur úr kísilríku affallsvatni jarðvarmavirkjana sem í dag er að mestu leyti ónýtt auðlind. Fyrirtækið fékk aðstöðu í frumkvöðlasetrinu Eldey á Ásbrú en tæknifræðinámið í Keili er kjörinn vettvangur fyrir frumkvöðla til að þróa hugmyndir sínar. GeoSilica Iceland ehf. fékk verkefnisstyrk frá Tækniþróunarsjóði haustið 2012 og var valin ein af 10 bestu viðskiptahugmyndunum í Gullegginu 2013, frumkvöðlakeppni á vegum Innovit. Meðfram rekstri fyrirtækisins stundar Fida meistaranám í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ.
Komdu í Keili!
PIPAR \ TBWA
•
SÍA
•
131591
Saga Fidu er eitt af fjölmörgum dæmum um þau tækifæri sem opnast hafa í Keili!
KEILIR ÁSBRÚ 578 4000 keilir.net
3
4
fimmtudagurinn 23. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR
RITSTJÓRNARBRÉF PÁLL KETILSSON
vf.is
Útgefandi: Afgreiðsla og ritstjórn: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: BlaðamENN: Auglýsingadeild: Umbrot og hönnun: Auglýsingagerð: Afgreiðsla: Prentvinnsla: Upplag: Dreifing: Dagleg stafræn útgáfa:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154 Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Aldrei fleiri tómstundir í boði í Reykjanesbæ
Ætla Sigmundur og Bjarni að gefa grænt á álverið? Það var orðið lúið að skrifa hér um álver í Helguvík á meðan síðasta ríkisstjórn var við völd en nú hefur ný fæðst sem hefur lofað því að styrkja atvinnulífið, nokkuð sem bæði Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur voru sammála um fyrir þessar alþingiskosningar. Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson fengu aðstöðu hjá Birgi Þórarinssyni sem rekur skemmtilegt gistiheimili á Vatnsleysuströnd, til að fínpússa stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Svo það hlýtur að vera ein af stóru spurningunum sem þeir kappar fá þegar þeir lýsa helstu verkefnum nýrrar ríkisstjórnar, hvort þeir hafi verið sammála um að koma álverinu í Helguvík í gang? Nokkuð sem síðasta ríkisstjórn var ekki sammála um. Norðurál hefur þegar lagt til 15 milljarða króna í uppbyggingu álversins og það er ekki hálfbyggt. Á þeim bænum er allt til reiðu ef græna ljósið birtist. Forstjóri Norðurláls er bjartsýnn á að Helguvík fari í gang á árinu. „Ef menn einhenda sér
grindavík
N
ú er komið út hið árlega vefrit Sumar í Reykjanesbæ 2013, þar sem tíunduð eru margvísleg afþreyingar- og fræðslunámskeið fyrir börn og ungmenni í Reykjanesbæ. Má þar nefna hið hefðbundna sundnámskeið, golf hjá GS, smíðavellir, reiðskóla Mána, dans, list- og söngnámskeið, Sumarfjör Fjörheima og sumarlestur Bókasafnsins. Fimleikadeildin verður með námskeið sem hún nefnir Fimleikar og fjör og knattspyrnudeild Keflavíkur verður með knattspyrnuskóla fyrir 4-6 ára. Svo er KFUM og K með leikjanámskeið fyrir 6-9 ára. UMFN verður með Sport- og ævintýraskóla líkt og undanfarin ár. Í vefritinu er að finna upplýsingar um Vinnuskólann og ný kort af gönguleiðum bæjarins o.fl. Að auki er nú boðið upp á í fyrsta sinn tölvuleikjaforritun fyrir börn og unglinga á aldursbilinu 7-16 ára. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjanesbæjar hvetur foreldra og forráðamenn að kynna sér vel efni ritsins og finna námskeið við hæfi hvers og eins. Gjaldi er stillt í hóf og mjög margir bjóða upp á systkinaafslátt.
í að leysa það sem út af stendur getur allt verið komið á fulla ferð síðar á árinu.“ segir Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls í viðtali við tímaritið Frjálsa Verslun. Víkurfréttir birta brot úr viðtalinu en þar kemur m.a. fram að á byggingartímanum er áætlað að 5 þúsund störf skapist og síðan um eitt þúsund störf þegar verksmiðjan verður komin í fullan gang. Þetta eru stórar tölur og ljóst að það má vænta mikilla breytinga í samfélaginu á Suðurnesjum næstu árin þegar þetta verður orðið að veruleika. Það þarf ekki að orðlengja að samfélagið hér hefur verið í erfiðleikum frá bankahruni vegna slæmrar stöðu í atvinnumálum. Hvergi á landinu hafa fleiri fyrirtæki orðið gjaldþrota. Vonandi sjá Suðurnesjamenn fram á betri tíð með blóm í haga. Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson geta haft áhrif á það. Ekki er ólíklegt að Suðurnesjamenn eignist ráðherra í Ragnheiði Árnadóttur sem er oddviti Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi og öruggt þykir að Sigurður Ingi Jóhannsson verði ráðherra framsóknar (ekki vitað þegar þetta er skrifað). Sjö manna þinglið sem býr á Suðurnesjum hlýtur að veita nýrri ríkisstjórn góðan styrk í þessu verkefni sem þarf að sparka í gang sem allra, allra fyrst.
SUMARSPJALL
Verður alveg einstakt sumar - Bananar með súkkulaði á grillið
T
Bæjarstjórinn fékk sér gula bjöllu eftir sigurinn
B
æjarstjóri Grindavíkur, Róbert Ragnarsson, fagnaði ærlega á dögunum þegar Grindvíkingar urðu Íslandsmeistarar í körfubolta karla annað árið í röð. Formaður bæjarráðs í Grindavík, Kristín María Birgisdóttir birti mynd á ljósmyndavefnum Instagram af bæjarstjóranum þar sem hún hélt því fram að bæjarstjórinn hefði farið alla leið eftir sigurinn í körfunni og fjárfest í gulri bjöllu. Um létt grín var þó að ræða.
„Eftir að við urðum Íslandsmeistarar í körfu fór Róbert bæjarstjóri all in og fékk sér GULA bjöllu! Reyndar valdi hann bílinn hjá Hertz á leið á fund með bæjarstjóranum í Garðabæ,“ skrifaði Kristín við myndina sem sjá má hér að ofan. Hefði Kristín merkt myndina sína með „hashtagginu“ #vikurfrettir, er aldrei að vita nema hún hefði getað unnið sér inn veglega vinninga í Instagram leik Víkurfrétta, enda er myndin glæsileg.
helma Rún Matthíasdóttir er 16 ára stúlkukind úr Keflavík. Hún hlakkar til sumarsins sem hún telur að verði alveg einstakt í ár. Hún ætlar sér að vinna í bæjarvinnunni en auk þess er hún í hlutastarfi hjá ömmu sinni sem rekur matvælafyrirtækið Gott í kroppinn. Það versta við sumarið að mati Thelmu, er hversu lengi það er á leiðinni, að öðru leyti er það frábært. Hvernig leggst sumarið í þig? Er farin að hlakka alveg þvílíkt til að skólinn sé að verða búinn og allt fjörið sé að byrja þótt sumarið sé kannski smá seint á ferðinni akkúrat núna. Hvar verður þú að vinna í sumar? Ég verð eitthvað í bæjarvinnunni og svo hjá ömmu í Gott í kroppinn ehf, en maður er að leita sér að einhverju skemmtilegu til að gera í sumar. Hvernig á að verja sumarfríinu? Held að ég ætli bara að taka því rólega í fótboltanum, blakinu og vinnunni, svo auðvitað eitthvað skemmtilegt með vinunum, held að þetta verði alveg einstakt sumar! Á að ferðast innan- eða utanlands? Ætla að ferðast alveg fullt innanlands en utanlands ferðalög geymi ég fram á vetur bara.
ÓSKUM EFTIR VÖNUM RAFVIRKJUM Þurfa að geta unnið sjálfstætt Umsóknir ásamt helstu upplýsingum sendist á helgi@rafholt.is Rafholt ehf. er framsækið fyrirtæki sem starfar á útboðsmarkaði og í þjónustu við fyrirtæki og stofnanir. Boðið er upp á mjög góða aðstöðu fyrir starfsmenn. Öflugt starfsmannafélag er starfrækt hjá fyrirtækinu.
www.rafholt.is 517 7600
Hvað einkennir íslenskt sumar? Held að það séu allir sammála mér þegar ég segi einstaklega lengi að koma. Hvað á að gera um verslunarmannahelgina? Ekkert planað eins og er, kannski maður tjaldi einhvers staðar með vinunum. Hver veit? Áhugamál þín? Ég er algjör listamaður, ég elska
að mála og hef áhuga á öllu sem kemur ímyndunaraflinu við. Svo eru það auðvitað íþróttir sem eru algjörlega númer 1, 2 og 3 hjá mér. Áttu þér einhver áhugamál sem þú stundar bara á sumrin? Ætli það sé ekki bara að liggja í sólinni og leyfa sér að fá smá lit. Þegar þú heyrir orðið sumarsmellur, hvaða lag kemur upp í hugann? Eitthvað skemmtilegt sumarlag með Friðriki Dór. Hvað er það besta við íslenskt sumar? Gott grillveður á kvöldin, það gerist varla betra en það. En það versta? Hvað það er hrikalega lengi að koma, alltaf þessi blessaða rigning hérna. Hvað fer á grillið hjá þér í sumar? Pulsur, kjúklingur og kjötbitar, allt mögulegt held ég. Auðvitað skellir maður svo bönunum með súkkulaði á grillið í eftirrétt einhver kvöldin, það er alltaf lang best. Sumardrykkurinn? Óáfengur mojito eða sprite og ávaxtasafablanda sem ég blandaði í fyrrasumar, það verður lengi í uppáhaldi held ég.
5
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 23. maí 2013
VW Polo Árgerð 2010, bensín Ekinn 82.000 km, beinsk.
Ásett verð
1.700.000,-
ÚRVALS
NOTAÐIR BÍLAR í REYKJANESBÆ
Komdu til okkar á Njarðarbraut 13 og prófaðu einn af gæðingunum í notuðum bílum. Sölumenn taka vel á móti þér!
NISSAN X-trail
VW Golf gti
MMC Pajero
VW Golf
Ásett verð
Ásett verð:
Ásett verð
Ásett verð
1.650.000,-
1.990.000,-
2.990.000,-
790.000,-
HONDA Jazz
VW Touran
VW Touareg
MMC Outlander
Ásett verð
Ásett verð
Ásett verð
Ásett verð
2.690.000,-
1.590.000,-
2.490.000,-
1.090.000,-
SKODA Octavia
M.BENZ C c230k Árgerð 2006, bensín Ekinn 99.000 km, sjálfsk.
HYUNDAI Santa fe lx
FIAT P200
Árgerð 2002, bensín Ekinn 190.000 km, sjálfsk. Ásett verð
Ásett verð
Ásett verð
Ásett verð
590.000,-
2.790.000,-
1.350.000,-
Árgerð 2005, bensín Ekinn 127.000 km, sjálfsk.
Árgerð 2011, bensín Ekinn 40.000 km, sjálfsk.
Njarðarbraut 13 Reykjanesbæ Sími 420 3040 www.heklarnb.is
Árgerð 2005, bensín Ekinn 106.000 km, sjálfsk.
Árgerð 2005, bensín Ekinn 135.000 km, beinsk.
Árgerð 2005, dísil Ekinn 150.000 km, sjálfsk.
Árgerð 2003, bensín Ekinn 133.000 km, sjálfsk.
Árgerð 2006, bensín Ekinn 75.000 mílur, sjálfsk.
Árgerð 2004, bensín Ekinn 168.000 km, beinsk.
Árgerð 2003, bensín Ekinn 134.000 km, sjálfsk.
Árgerð 2006, dísil Ekinn 15.000 km, beinsk.
6.150.000,-
6
fimmtudagurinn 23. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR
andabringa a l´orange á grillið
Kræsingar & kostakjör
AndAbringA skerið í fitu á bringu með jöfnu millibili þvert á bringuna, kryddið bringu á báðum hliðum með sjávarsalti, grófum pipar og timian, látið sitja í 15 mín. hitið grill mjög vel, setjið bringu, fituhlið á grillið, passa eld sem myndast. snúið við og setjið kjöthlið á grill í ca. 3 mín. snúið við aftur og látið fituhlið brúnast vel á grilli, setjið síðan á lágan hita og eldið eftir smekk, mælt með medium eldun. eldun tekur rétt um 12 – 15 mín eftir hita og grilli. passa að snúa bringu nokkrum sinnum. SóSa og meðlæti
andabringur franskar
2.998
AppelsínusósA 2 matsk sykur, sherry – 2 bollar vatn, 2 bollar appelsínusafi, shallottulaukur smátt skorinn, börkur af appelsínu og smávegis af sítrónu. kjúklingAkrAftur 2 matsk smjör - aðferð – setjið sykur í pott, látið brúnast, bætið svo við sherry, vatn, appelsínusafa, lauk og látið sjóða á lágum hita þar til hefur soðið niður, bætið útí berki af appelsínu og sítrónu, takið af hita, látið standa í 3 mín og hrærið smjöri útí sósu. gott er að setja bringur, skornar, á fat og hella sósu yfir, látið standa í 2 – 3 mínútur. meðlæti
kryddjurtAsAlAt gljáð rótargrænmeti með sætum kartöflum.
áður 3.527 kr/kg
grill lambalæri kryddað
1.392
áður 1.698 kr/kg
grísahnakkssneiðar beinlausar piri piri
1.799
kjúklingabringur okkar - 3stk
1.990 áður 2.398kr/kg
lambahryggur
fylltur m. sveppafyllingu
2.479 áður 3.099 kr/kg
áður 2.398 kr/kg
25% afsláttur www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |
7
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 23. maí 2013
lambaskrokkur 1/2 grillsagaður
verðsprengja! 878 áður 1.098 kr/kg
paprika rauð
349 áður 698 kr/kg
50% afsláttur
pepsi & pepsi max 33cl dósir
79
áður 99 kr/stk
massarína kristjánsbakarí
659
áður 1.098 kr/stk
40% afsláttur
adidas 50ml svitalyktareyðir 4 teg.
299 áður 399kr/stk
25% afsláttur Tilboðin gilda 2.maí - 5.maí Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
8
fimmtudagurinn 23. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR
700 á Heklugosi H
eklugos var haldið í annað sinn sl. fimmtudag en það er samstarfsverkefni hönnuða og fyrirtækja á Suðurnesjum. Markmið Heklugoss er að kynna skapandi kraft og fjölbreytta hönnun sem finna má á Suðurnesjum. Yfir 700 manns mættu í Atlantic Studios þar sem sýningin var haldin en heiðurinn af henni eiga Helga Steinþórsdóttir hönnuður og atvinnuþróunarfélagið Heklan. Aðrir þátttakendur og stuðningsaðilar eru SKASS (samtök kraftmikilla, alvöru og skapandi suðurnesjakvenna), Bláa lónið, Íslandsbanki, Kadeco, Dutyfree Fashion og Valitor. Meðfylgjandi myndir tóku ljósmyndarar frá ljósmyndaklúbbnum Ljósopi fyrir Hekluna.
VF
Sumar í myndum Suðurnesjamanna
Norð á frím
N
orðurlj Olgeirs fara víða og h ratað á fríme inum. Nú er með myndu leið á sýningu Norræna frí ingin NOR verður haldin Garðabæ 7.-9 Þetta er í sjö þessi norræna Íslandspóstur hennar og eru sinni. Hlynur Ólafss örkina sem in til Evrópu (íg er því 700 kr Andrésson.
Hér sjáum við það besta sem Instagram hefur upp á að bjóða þessa vikuna. Þarna eru ýmsar skemmtilegar myndir sem ættu að gleðja augað og það er alveg ljóst að Suðurnesjamenn eru með auga fyrir góðum ljósmyndum. Eydís Ósk á þessa sumarlegu mynd af ungri blómarós sem valhoppar inn í sumarið. Erna Lind Teitsdóttir á þessa líflegu mynd sem tekin er á körfuboltavellinum í Njarðvíkurskóla. Ingi Þór Hallgrímsson náði þessari fínu mynd af Kela Keflvíkingi á leik Keflavíkur og Fylkis. Vinningshafar geta vitjað vinninga á skrifstofu Víkurfrétta að Krossmóa 4 á fjórðu hæð.
1.
Fjósið orðið að gistiheimili H
ulda Sveinsdóttir og Hrafn Jónsson hafa breytt heimili sínu og vinnustofu í Fjósinu í Koti við Sjávargötu í Njarðvík í gistiheimili. Þar hafa verið innréttuð þrjú tveggja manna herbergi á jarðhæð og á efri hæð er fjögurra manna herbergi. Herbergin eru öll hver með sínu sniði. Eitt heitir Music en þar eru fjöldinn allur af hljóðfærum og annað skemmtilegt sem tilheyrir tónlistinni. Annað herbergi kallast Antique en þar eru margir gamlir hlutir,
Singer saumavél notuð sem skrifborð og annað skemmtilegt. Þriðja herbergið á jarðhæð kallast Byre Workshop eða vinnustofan í fjósinu en það nafn kom til vegna þess að þar voru þau Hulda og Hrafn áður með vinnustofu sína, Raven Design. Á efri hæðinni er svo herbergi sem kallast Saga en það er 4 manna herbergi. Þeir sem vilja kynna sér nánar nýja gistiheimilið og bóka gistingu er bent á vefsíðuna http://ravensbnb.is/
9
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 23. maí 2013
MANNLÍFIÐ Í MYNDUM
Gerðu góð kaup í notuðum bíl frá Bílabúð Benna
Chevrolet Captiva
Norðurljós Olgeirs á frímerkjasýningu
Skráningardagur 6.2012 Sjálfskiptur, ekinn 34.000 km Verð 5.590.000-
N
orðurljósamyndir Olgeirs Andréssonar fara víða og hafa þær m.a. ratað á frímerki frá Póstinum. Nú eru frímerkin með myndum Olgeirs á leið á sýningu. Norræna frímerkjasýni n g i n N O R D IA 2 0 1 3 verður haldin í Ásgarði í Garðabæ 7.-9. júní 2013. Þetta er í sjötta sinn sem þessi norræna frímerkjasýning er haldin hérlendis. Íslandspóstur mun að venju gefa út smáörk í tilefni hennar og eru norðurljósin þema hennar að þessu sinni. Hlynur Ólafsson grafískur hönnuður hannaði smáörkina sem inniheldur 4 frímerki að verðgildi 50g til Evrópu (ígildi 175 kr.). Söluverð smáarkarinnar er því 700 kr. Norðurljósamyndirnar tók Olgeir Andrésson.
Flottir Víkingar
S
öngsveitin Víkingar hélt sína árlegu vortónleika á dögunum. Söngsveitin söng í Útskálakirkju, Ytri-Njarðvíkurkirkju í Safnaðarheimilinu í Sandgerði. Yfirskrift tónleikanna var: Frá okkur til ykkar með sumarkveðju, enda er enginn aðgangseyrir inn-
heimtur og allir voru velkomnir. Efnisskráin var að venju létt og skemmtileg, góð blanda af íslenskum og erlendum lögum frá ýmsum tímum. Stjórnandi er Steinar Guðmundsson. Meðfylgjandi mynd var tekin á tónleikunum í Útskálakirkju. VF-mynd: Hilmar Bragi
Chevrolet Cruze Skráningardagur 4.2012 Sjálfskiptur, ekinn 6.000 km
Toyota Yaris Skráningardagur 6.2007 Beinskiptur, ekinn 120.000 km
Verð 3.190.000-
Verð 1.250.000-
Subaru Impreza Chevrolet Aveo Skráningardagur 7.2007 Skráningardaur 6/2010 Sjálfskiptur, ekinn 77.000 km Beinskiptur, ekinn 60.000 km Verð 1.590.000-
Stjórnarsáttmálinn saminn á Vatnsleysuströnd
R
íkisstjórnarmyndunarviðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks áttu sé stað á Vatnsleysuströnd í síðustu viku. Formenn flokkanna þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson funduðu að bænum Minna-Knarrarnesi, þar sem hjónin Birgir Þórarinsson og Anna Rut Sverrisdóttir búa og reka ferðaþjónustu. Að sögn Birgis gengu viðræðurnar vel og stóðu fram á nótt. „Formennirnir unnu að gerð stjórnarsáttmálans. Það fór vel á með þeim og ég er sannfærður
um að samstarf þeirra verði gott,“ segir Birgir við Víkurfréttir. Sigmundur og Bjarni höfðu orð á því að góður andi væri í húsinu og til gamans má geta þess að í stofunni að Minna-Knarrarnesi, þar sem þeir funduðu, eru 120 ára gamlar kirkjugólffjalir, sem Birgir lagði á stofugólfið á sínum tíma og sóma sér vel. Það má því segja að stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar hafi verið saminn á kirkjugólfi. „Það veit á gott,“ segir guðfræðingurinn Birgir að lokum.
Verð 1.490.000-
Ford Focus C-max Kia Sorento Skráningardagur 2.2007 Skráningardagur 4/2007 Sjálfskiptur, ekinn 143.000 km Sjálfskiptur, ekinn 108.000 km Tilboð 1.090.000-
Tilboð 2.890.000-
Njarðarbraut 9, Reykjanesbæ, s. 420 3330, www.benni.is
10
fimmtudagurinn 23. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR
Fjölskyldutónleikar með Gospelkrökkum Í
tilefni 5 ára afmælis Gospelkrakka verða tónleikar í Stapanum, Reykjanesbæ, laugardaginn 25. maí kl. 16:00. Ókeypis er inn á tónleikana en samskot verða til styrktar barnaheimilis Hjálpræðishersins í Paraguay, sem Ester og Wouter van Gooswilligen munu sjá um næstu árin. Tónleikarnir verða jafnframt kveðjutónleikar fyrir fjölskylduna van Goswilligen, en Ester sem er stofnandi „Gospelkrakka“ hefur stjórnað kórnum sl. 5 ár. Hundruð barna og unglinga hafa verið með í „Gospelkrökkum“ þessi ár og eru þau sérstaklega boðin að koma á þessa tónleika og taka þátt í lokalagi tónleikanna „Gospelgleði“.
Tökulag fyrir Víkurfréttir nálgast 250.000
M
Sandgerðingar fella niður fasteignaskatt Á
BS fá hjartahnoðtæki B
runavarnir Suðurnesja tóku fyrir helgi við nýju Lúkas hjartahnoðtæki. Tækið er það fyrsta utan Reykjavíkur en aðeins eru nú þrjú slík tæki á landinu. Njáll Pálsson hafði fyrir hönd Starfsmannafélags Brunavarna Suðurnesja forgöngu um söfnun til kaupa á Lúkas hjartahnoðtæki til nota á sjúkrabílum B.S. Njáll
leitaði eftir stuðningi nokkurra klúbba og félagasamtaka og fór á fund hjá þeim og kynnti verkefnið. Undirtektir voru einstaklega góðar og safnaðist fyrir hjartahnoðtækinu á skömmum tíma, en verðmæti þess er um 2,5 milljónir króna með virðisaukaskatti. Brunavarnir Suðurnesja kunna öllum þeim sem lögðu þessu verk-
efni lið hinar bestu þakkir, en með tilkomu Lúkas hjartahnoðtækisins er hægt að veita sjúklingum bestu mögulegu þjónustu og auka lífslíkur þeirra sem lenda í hjartaáföllum. St y rkt ar a ð i l ar ve g n a s öf n unar á Lúkas – hjartahnoðtæki fyrir Brunavarnir Suðurnesja eru Lionsklúbbur Njarðvíkur, Lionsklúbburinn í Garði, Lionsklúbburinn Æsa í Njarðvík, Lionessuklúbbur Keflavíkur, Styrktarfélag Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í minningu Jóhanns Einvarðssonar, Maríu Hermannsdóttur og Hildar Guðmundsdóttur, Sjálfsbjörg Suðurnesjum, Kiwanisklúbburinn Hof Garði, Oddfellowstúkan Njörður, Rauði kross Íslands Suðurnesjadeild, Björgunarsveitin Suðurnes og Soroptomistaklúbbur Keflavíkur.
eða strákur Ert þú stelpa , ’99 eða ‘00) (árgangur ‘98 taka þátt og langar að GREASE? í söngleiknum dans, förðun Leikur, söngur, sem er! eða bara hvað
fundi bæjarstjórnar Sandgerðis þann 8. maí sl. var samþykkt samhljóða að á næsta ári verði fellt niður 25% tímabundið viðbótarálag á fasteignaskatt íbúðarhúsnæðis, en viðbótarálagið var sett á árin 2012 og 2013. Samkvæmt fundargerð er ákvörðun um niðurfellingu álagsins tekin í ljósi þess árangurs sem náðst hefur við endurskipulagningu á rekstri og skuldum bæjarfélagsins. Í fundargerðinni segir enn fremur að rekstrarniðurstaða ársins 2012 gefi skýrt til kynna að góður árangur hafi náðst við fjárhagslega endurskipulagningu bæjarfélagsins síðustu ár. Tekist hafi að hagræða og lækka rekstrarútgjöld verulega og endurskipuleggja skuldir og skuldbindingar þannig að bæjarfélagið standi nú undir árlegum útgjöldum. Á sama fundi var ársreikningur Sandgerðsbæjar samþykktur einróma og lýsti bæjarstjórn í kjölfarið yfir ánægju með niðurstöður reikningsins og færði til bókar þakkir fyrir góð störf, samstöðu og sátt í samfélaginu um að taka á þeim fjárhagsvanda sem bæjarfélagið hefur glímt við.
ú taka
Söngleikurinn verður frumsýndur fyrir ljósanótt og ef þú ert áhugasamur / áhugasöm og langar að taka þátt, komdu þá á kynningarfund í
Frumleikhúsinu, Vesturbraut 17, föstudaginn 24. maí, kl. 17.00 Á fundinum verður verkið kynnt og þátttakendur verða skráðir í prufur Verkefnið er styrkt af Menningarráði Suðurnesja
tt? þá
Vilt þ
yndband Víkurfrétta með þeim Nönnu Bryndísi Hilmarsdóttur og Brynjari Leifssyni í hljómsveitinni Of Monsters and Men, þar sem þau fluttu tökulagið Kids með hljómsveitinni MGMT, er að nálgast kvartmilljón áhorf frá því í janúar. Aðeins vantar tæplega 4000 áhorfendur upp á að þeir verði 250.000 talsins. Myndbandið er það vinsælasta í Sjónvarpi Víkurfrétta á þessu ári en Víkurfréttir halda úti sérstakri rás á YouTube fyrir sjónvarpsefni sitt.
n Brunavarnir Suðurnesja:
11
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 23. maí 2013
Vogar kaupa eignir af Fasteign Á
rsreikningur Sveitarfélagsins Voga var samþykktur á fundi bæjarstjórnar 17. maí sl. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs var jákvæð um 178 milljónir króna, en rekstrarniðurstaða A- og Bhluta bæjarsjóðs var jákvæð um 192 milljónir króna, sem er mikill viðsnúningur frá fyrra ári. Helsta skýring bættrar afkomu eru áhrif fjárhagslegrar endurskipulagningar Eignarhaldsfélagsins Fasteignar (EFF). Sveitarfélagið Vogar hefur ákveðið að kaupa til baka þær fasteignir sem eru í eigu EFF á þessu ári og því næsta. Kaupin verða að mestu fjármögnuð með inneign sveitarfélagsins í Framfarasjóði, sem og öðru handbæru fé. Einnig er gert ráð fyrir að ráðast í lántöku í lok árs 2014 að fjárhæð 400 m.kr. Eiginfjárhlutfall sveitarfélagsins er nú um 40% og skuldahlutfall um áramót var um 95%. Leyfilegt hámark skuldahlutfalls er 150% af tekjum, samkvæmt fjármálareglum sveitarstjórnarlaga, og sveitarfélagið því vel innan þeirra marka. Þá hefur sveitarfélagið einnig náð að uppfylla ákvæði jafnvægisreglu sveitarstjórnarlaganna, og hefur því náð að uppfylla öll skilyrði sveitarstjórnarlaganna einungis tveimur árum eftir gildistöku þeirra. Það ríkir því bjartsýni um rekstur og afkomu Sveitarfélagsins Voga á næstu árum, sem er ánægjulegt eftir nokkur erfið ár í rekstrinum í kjölfar afleiðinga efnahagshrunsins 2008.
H amingj u h o rnið
An
na
Bara fótboltaleikur - held nú ekki vinan!! „Hvernig dettur konunni í hug að segja þetta, veit hún hvað maðurinn stendur fyrir, hvað þykist hún eiginlega vera“. Ekki laust við að fjölmiðlar hafi logað eftir ummæli blaðakonu um að ,,gamli karlinn“ Sir Alex Ferguson væri að hætta sem knattspyrnustjóri Manchester United - en þar gerir hún grín að viðbrögðum karlmanna vegna fréttarinnar. Mér fannst fróðlegt að heyra þessi viðbrögð enda góð áminning um að þegar tilfinningar eru annars vegar ættum við að fara varlega í að dæma. Hvað svo sem okkur gæti þótt um fótbolta þá er lærdómurinn sá að við höfum gott af því að skoða hvernig við setjum okkur í dómarasætið og höfum skoðanir á því hvernig aðrir eiga að haga sér. Ég fæ stórkostlega tilfinningaútrás á að horfa á dramatískar myndir/ ANNA LÓA þætti sem koma við mínar innstu ÓLAFSDÓTTIR taugar og best ef ég fer aðeins að grenja. Synir mínir hafa vit á SKRIFAR því að segja sem minnst ef þeir koma að mér í þessu ástandi en versta sem er hægt að segja við mig er: common mamma, þetta er bara bíómynd! Bara bíómynd, BARA bíómynd, ég held nú síður. Þetta er mynd sem kemur mér í tengsl við tilfinningar mínar, dýpkar skilning minn á mannkyninu og gerir mig að betri manneskju þegar upp er staðið. Ég lifi mig svo inn í sumar myndir/þætti að ég kann heilu senurnar, þekki karakterana og ræði um þá eins og heimilisvini. Ég hef krufið þá: af hverju eru þeir á þeim stað sem þeir eru og hvernig geta þeir komist á betri stað í lífinu. Þessa dagana er
Þegar ég hugsa um karlmenn og fótbolta sé ég þetta nákvæmlega eins og þessar upplifanir mínar. Liðið sitt þekkja þeir út og inn og svo ekki sé talað um knattspyrnustjórann. ég t.d. með nákvæma áætlun fyrir Birgitte Nyborg úr Höllinni, áætlun um hvernig hún getur létt á álaginu sem einkennir líf hennar, notið þess að eiga kærasta og aðeins lært að sleppa tökunum. Við eigum svo margt sameiginlegt að það er ekki fyndið - þið ættuð bara að sjá mig í nýju dragtinni minni og hver haldið þið að sé að safna hári!!! Þegar ég hugsa um karlmenn og fótbolta sé ég þetta nákvæmlega eins og þessar upplifanir mínar. Liðið sitt þekkja þeir út og inn og svo ekki sé talað um knattspyrnustjórann. Með því að vera innviklaðir í fótboltann eru þeir að komast í nánari tengsl við tilfinningar sínar sem þegar til lengri tíma er litið er aldeilis frábært. Ég hef heyrt karlmenn tala um leikmenn eins og um sé að ræða góða heimilisvini þar sem persónum er lýst ítarlega og hvaða úrbætur væru ákjósanlegar ef þeir ætla ekki að klúðra lífi sínu. Ef mér hefur orðið á að segja: bíddu, hann er að klúðra hverjum leik á fætur öðrum“ fæ ég umsvifalaust að
Ló a
vita að dómharka mín eigi engan veginn rétt á sér miðað við það sem maðurinn er búinn að ganga í gegnum undanfarið. Það er dásamlegt að fylgjast með karlmönnum horfa á spennandi leik. Þeir fella tár, faðmast, hrópa og kalla, bölva og stappa og fá útrás sem þeir fengju ekki alla jafnan og mundu jafnvel skammast sín fyrir. Jafnvel þótt liðið tapi leik stækka þeir tilfinningasviðið sitt og deila með öðrum vonbrigðum sínum og svekkelsi um leið og þeir greina hvað fór úrskeiðis. Þannig getur einn fótboltaleikur jafnast á við nokkra meðferðatíma hjá fagaðila. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að athugasemdir eins og: common, þetta er bara fótbolti!! eiga klárlega ekki við þegar leikurinn er í hámarki. Ég vísa bara í viðbrögð mín hér að ofan þegar mér er bent á slíkt á ögurstundu í bíómyndaglápi - BARA fótboltaleikur, maður segir ekki svona!! Tilfinningaútrás er einstaklingsbundið atferli og margt mun verra sem kemur upp í hugann en bíómynda- og fótboltagláp!! Sir Ferguson og Birgitte Nyborg eru hér með kvödd með trega en leikurinn heldur áfram. Á sama tíma afsala ég mér þeirri ábyrgð að pistill þessi sé notaður til að réttlæta öfgafulla aðdáun eins og svefnpokapláss á uppáhalds sportbarnum, barsmíðar og brjálæðis bjórþamb, helgarferðir á heimaslóðir frk. Nyborg svo ég tali nú ekki um lýtaaðgerðir til að líkjast uppáhalds (safna hári telst ekki lýtaaðgerð!). Þangað til næst - gangi þér vel! Anna Lóa Fylgstu með mér - http://www. facebook.com/Hamingjuhornid
Skemmtilegir 25 ára afmælistónleikar Léttsveitar TR L
éttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar lék á als oddi á 25 ára afmælistónleikum hennar í Stapa á mánudagskvöld. Sveitin flutti fjölda laga frá ferlinum, bæði ný og gömul. Núverandi og margir fyrrverandi liðsmenn sveitarinnar komu fram, fyrst flutti sveitin nokkur lög eins og hún er skipuð í dag, því næst með eldri félögum en í lokin sameinaðist allur hópurinn undir stjórn „mömmu“ sveitarinnar, Karenar Sturlaugsson. Nokkrir kunnir kappar hafa stígið sín fyrstu skref í léttsveitinni, þar á meðal Valdarnir úr hljómsveitinni Valdimar, þeir Valdimar Guðmundsson og Þorvaldur Halldórsson. Stapinn var þétt setinn og tónleikagestir kunnu vel að meta stemmningu kvöldsins. Karen lofaði því eiginlega að sveitin kæmi saman aftur með gömlu liðsmönnunum líka sem margir eru hættir hljóðfæraleik í dag. Vonandi stendur hún við það loforð því tónleikarnir voru mjög skemmtilegir.
Sjónmælingar í Optical Studio Tímapantanir í síma 421-3811
12
2
fimmtudagurinn 23. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR Fimmtudagurinn 14. apríl 2011
VÍKURFRÉTTIR
SMÁAUGLÝSINGAR 421 0000 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS
Þjónustumiðstöðin Nesvöllum Vikan 23. maí - 29. maí nk.
TIL LEIGU Einstaklingsíbúð til leigu að Vallargötu 18 Keflavík, kr. 58.000 á mánuði með hita og rafmagni, reykleysi og reglusemi áskilinn. Upplýsingar í síma 618 9087 Atvinnuhúsnæði við Hrannargötu Til leigu tæplega 150 m2 atvinnuhúsnæði við Hrannargötu, góð lofthæð og bílalyfta getur fylgt. Hagstætt leiguverð. Uppl. í síma 895 8230 og 860 8909.
ÞJÓNUSTA GB Goggar. Annast allar húsaviðgerðir, múr, sprungur, tröppur, kanta og lekaþéttingar. Slæ einnig garða, innifalið er næringaefni fyrir tré. Uppl. í 772 2561
ÓSKAST Óska eftir 3 herbergja íbúð mæðgin bráðvantar 3 herbergja íbúð í Reykjanesbæ frá og með 1. júní næstkomandi. Er reglusöm og skilvís. Sími 845 1800
TIL SÖLU Bílskúrssala Húsgögn, Innihurðir, eldhúsborð og stólar, útimálning, byggingarvörur, verkfæri, bílavarahlutir, tölvuíhlutir, skenkur, kaffi og kleinur. Brekkustíg (beint á móti Bílabaðinu) Nánari upplýsingar í síma 618 9087
• Bingó • Gler-, keramik- og leirnámskeið • Handavinna • Leikfimi - dans- boltaleikfimi. • Línudans • Félagsvist • Tölvuklúbbur • Bridge • Hádegismatur • Síðdegiskaffi Föstudaginn 24. maí nk. á Nesvöllum kl. 14:00. Kór Holtaskóla, danssýning Allir velkomnir Nánari upplýsingar í síma 420 3400 eða á www.nesvellir.is/
KAUPUM BÍLA Í NIÐURRIF Eigum varahluti í marga bíla
Iðavellir 9c - 230 Reykjanesbæ - 421 7979
www.bilarogpartar.is
VÍKURFRÉTTIR Í SÍMANN
m.vf.is
n Þóranna K. Jónsdóttir er með markmið:
Þjálfar skæruliða! M
argir muna eflaust eftir Þórönnu K. Jónsdóttur þegar hún var verkefnastjóri Frumkvöðlasetursins á Ásbrú og var m.a. ósjaldan á síðum Víkurfrétta í tengslum við það. Nú eru að verða tvö ár síðan Þóranna hætti störfum hjá Frumkvöðlasetrinu, en það er langt frá því að hún hafi setið iðjulaus. Hún er nefnilega kona með markmið. Markmiðið er að þjálfa upp öfluga íslenska skæruliða sem geta sigrað heiminn. Ekki með byssum og sprengjum, heldur með öflugri markaðssetningu! „Ég var búin að vera í markaðs- og auglýsingamálum í mörg ár áður en ég tók að mér verkefnastjórastöðuna hjá Kadeco, og þegar ég fór að vinna með minni fyrirtækjum í gegnum Frumkvöðlasetrið þá sá ég hversu gríðarleg þörf er á að bæta markaðsstarf þessara fyrirtækja,“ segir Þóranna. „Það er súrt að vita til þess að fólk sé með frábæra vöru eða þjónustu í höndunum, en það verður aldrei neitt úr neinu vegna þess að fyrirtækin klikka á markaðsmálunum – sem eru ekkert vúdú. Markaðsstarfið nær jú í viðskiptavinina og án þeirra er maður víst ekki lengi í rekstri,“ segir Þóranna. Minni fyrirtæki hafa hins vegar ekki efni á að ráða starfsmann eða kaupa dýra markaðsráðgjöf til að bæta úr þessu svo til að geta veitt þessa þjónustu á hagkvæman hátt brá Þóranna á það ráð að veita hana í gegnum netið, en þannig er hægt að þjónusta færri og því bjóða þjónustuna á hagkvæmari kjörum. Víkurfréttir greindu einmitt frá því á síðasta ári þegar viðskiptaáætlunin fyrir þjálfunina lenti í topp 10 í viðskiptaáætlunarkeppni Innovit, Gullegginu. „Það var mjög gaman að fá þessa viðurkenningu á því að maður væri á réttri leið með þetta, en það er líka magnað hvað mikið gerist á einu ári og hvernig hlutirnir þróast,“ segir Þóranna. „Það er náttúrulega sérstaklega gaman þegar viðskiptavinum manns gengur vel og maður sér árangurinn af þjálfuninni og allri vinnunni í verki.“ Þjálfunin leiðir fólk í gegnum frumskóginn og fer skref-fyrir-skref í gegnum það sem þarf til að leggja grunn að góðu markaðsstarfi – á mannamáli – enda starfar Þóranna undir merkjum Markaðsmála á mannamáli. „Fólk hefur ekkert við eitthvað fræðilegt mumbo jumbo að gera – þetta þarf bara að vera skiljanlegt og hagnýtt. Ég líki þjálfuninni stundum við þekkta sænska húsgagnavöruverslun,“ segir Þóranna og brosir, „fólk fær tækin, tólin og leiðbeiningarnar en
græjar hlutina sjálft, og þannig er hægt að hjálpa þeim á verði sem þau ráða við.“ „Það er talað um skæruliðamarkaðssetningu þegar leitast er við að fara hagkvæmar og óhefðbundnar leiðir í markaðssetningunni og árangurinn mældur í hagnaði frekar en sölu. Það er sosum ekkert stórmál að selja rosa mikið ef maður eyðir rosalega miklu til þess, en þá verður ekkert eftir – þess vegna hef ég alltaf verið hrifin af skæruliðaaðferðinni. Ég stefni að því að búa til fullt af markaðsskæruliðum!“ segir Þóranna að lokum. Á vef þjálfunarinnar, mam.is, má fá meiri upplýsingar um þjálfunina ásamt upplýsingum um samfélagsmiðla, póstlista og annað fyrir þá sem vilja fá ýmsar gagnlegar ráðleggingar fyrir markaðsstarfið.
heilsuhornið
T
ÍAV óskar eftir að ráða bifvélavirkja / vélvirkja til starfa á verkstæði félagsins á Suðurnesjum. Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af viðgerðum á stórum vinnuvélum. Nánari upplýsingar veitir Þórmar Viggósson í s. 660-6225. Tekið er á móti umsóknum á heimasíðu félagsins www.iav.is
ATVINNA Skipstjóri og vélavörður óskast á farþegabát sem siglir frá Keflavík í sumar. Frekari upplýsingar í síma 896 5598.
Turmerik
urmerik (Curcuma longa) er l æk ning ajur t s em hefur sennilega verið mest rannsökuð síðastliðin ár og vakið athygli vísindamanna fyrir fjölþætt heilsubætandi áhrif á líkamann. Turmerik er bæði notað sem krydd í mat og hvað þekktast í indverskri matargerð en einnig verið notað sem náttúrulyf í aldanna rás. Nýlegar rannsóknir á virka efninu í turmerik sem heitir curcumin virðist draga Ásdís úr lifrarskemmdun samkvæmt grasalæknir rannsókn sem gerð var á Medical skrifar University Graz í Austurríki, en turmerik hefur lengi verið notuð í náttúrulækningum til að stuðla að afeitrun lifrarinnar. Rannsókn sem birt var 2004 í vísindaritinu Oncogene sýndi fram á sambærilega bólgueyðandi virkni turmeriks og bólgueyðandi lyfja eins og Aspirin, Ibuoprofen, Naproxen o.fl. skyld lyf en turmerik hefur m.a. hamlandi áhrif á svokallað COX-2 ensím líkt og þessi lyf hafa. Fleiri rannsóknir benda til þess að tur-
merik hefur sterk andoxunaráhrif á frumur, bakteríu- og vírusdrepandi virkni gegn ákveðnum örverum og krabbameinshamlandi áhrif, t.a.m. verndandi áhrif gegn húðkrabbameini. Turmerik gæti gagnast fólki með hvers konar gigt og bólgusjúkdóma þ.m.t. bólgusjúkdóma í þörmum, astma og fleiri króníska sjúkdóma. Það eru margar leiðir til þess að nýta sér áhrif turmeriks í mataræðinu eins og t.d. að hræra 1-2 tsk af turmerikdufti (kryddið) í bolla af heitu vatni og drekka eins og te 2-3svar yfir daginn, eða setja 1-2 tsk út í mat s.s. eggjahræru, súpur, pottrétti, boost eða safa. Turmerik frásogast betur ef svartur pipar er notaður með því en hann eykur nýtingu og frásog turmeriks til muna. Einnig er hægt að taka turmerik inn í hylkjaformi fyrir þá sem kjósa frekar. Bólgueyðandi sumar salatsósa: 4 msk lífræn ólífuolía safi úr 2 sítrónum ¼ avókadó 1 hvítlauksrif 1 msk turmerik duft 1 msk lífrænt hunang (eða 5 dropar hrein stevia) smá salt Öllu skellt í blandara. Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is www.pinterest.com/grasalaeknir
13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 23. maí 2013
GARÐAÚÐUN
Póstkassinn
Úðum gegn: Roðamaur, kóngulóm,
n ÁSMUNDUR FRIÐRIKsson skrifaR:
Atvinnu- og verðmætasköpun í nútíð og framtíð – hvernig? Síðustu árin hef ég lagt atvinnuuppbyggingu lið enda er fátt mikilvægara framtíð okkar Íslendinga en öflug atvinnuuppbygging í nút íð og framtíð. Við eigum að virkja en nýta auðlindir okkar með sjálfbærum og ábyrgum hætti í framtíðinni. Vinna saman að því að skapa fjölbreytt og vel launuð störf – eins og sæmandi er lífsglaðri, áræðinni og vel menntaðri þjóð með túnfótinn smekkfullan af tækifærum. Við verðum að framleiða og skapa verðmæti til að bæta lífskjörin. Atvinnulífið er forsenda bættrar stöðu heimilanna og samfélagsins alls. Taka þarf þjóðhagslega hagkvæm verkefni úr frystinum Stór atvinnuverkefni, sem hafa verið í burðarliðnum í mörg ár hafa sum frosið föst vegna pólitísks ágreinings og breyttra forsenda og fjárfesting í atvinnulífinu verið í lágmarki. Þessi verkefni verðum við að taka úr frystinum og greiða götu þeirra þannig að verðmæta- og atvinnusköpun hefjist sem fyrst. Álver Norðuráls í Helguvík mun hafa gríðarlega jákvæð áhrif í hagkerfinu öllu sem og virkjanir á Reykjanesi, Hverahlíð og í neðri hluta Þjórsár. Þar er lítill ágreiningur um tvo virkjanakosti af þremur og á þeim mætti byrja nú þegar. Hér er verið að tala um verkefni sem skapa 10.000 ársstörf á næstu árum, hundruð varanlegra og vel launaðra starfa og milljarð í mánaðarlegar skatttekjur á framkvæmdatíma. Ný ríkisstjórn mun vinna með atvinnulífinu og verður að knýja fast á um orkusamninga sem komið geta álveri í Helguvík af stað. Samningur
þyrfti að mínu mati að gerast á fyrstu starfsvikum nýrrar ríkisstjórnar. Skapa þarf ný atvinnutækifæri Við þurfum einnig að skapa ný tækifæri og byggja upp nýjar atvinnugreinar. Þar getum við t.d. horft til starfsemi fyrirtækja sem sinna þjónustu við rannsóknir og framkvæmdir á hafi úti. Hér má sem dæmi nefna rekstur björgunarskipa, vaktskipa og birgðaskipa. Einnig hefur þessi iðnaður jákvæð áhrif á rekstur hafna og flugvalla og nær allar atvinnugreinar okkar því jaðaráhrifin eru mikil. Okkar helstu nágranna- og frændþjóðir hafa byggt upp öflugan iðnað í kringum olíuleit og olíuvinnslu í höfunum allt í kringum okkur. Í vestri eru það Kanada og Grænland, í austri Færeyjar, Drekasvæðið og Noregur og þaðan liggja vinnsluvæðin nær óslitið í suður, inn í Miðjarðarhaf og eftir allri vesturströnd Afríku. Teikn eru á lofti um að ýmis starfsemi á norðurslóðum muni aukast á næstu árum, t.d. eftirlit. Umfang og jaðaráhrif þessa iðnaðar er gríðarlegt, hvort sem horft er til veltu, afkomu eða daglegrar starfsemi. Færeyingar hafa herjað á þessi mið sl. 20 ár og með þeim ættum við að vinna og draga lærdóm af því sem vel hefur tekist hjá þeim. Færeyingar stóðu vel að sínum málum og tryggðu t.d. að öll olíuleit og vinnsla í færeyskri lögsögu skyldi þjónustuð frá Færeyjum. Við Íslendingar þurfum líka að tryggja að starfsemi sem þessi skili störfum, fjármunum og þekkingu til Íslands. Þetta styrkir og tryggir fjölbreytni í útgerð, hafnarstarfsemi, vertakavinnu, fjármálastarfsemi og verkfræðiþjónustu svo fá dæmi séu nefnd. Á þessi mið þurfum við Íslendingar að sækja og huga fyrst og fremst að þjóðarhagsmunum og uppbyggingu til framtíðar.
lirfum og lús í trjágróðri, illgresi í grasflötum og fl.
Við þurfum einnig að hvetja til fjárfestinga í sjávarútvegi, en við endurnýjun fiskiskipaflotans má horfa til ofangreindra tækifæra. Norðmenn hafa t.d. útbúið ný uppsjávarskip þannig að þau geti sinnt verkefnum tengdum olíuleit og olíuvinnslu utan vertíðar.
Fullgild réttindi og mikil reynsla! co/ Björn Víkingur og Elín Garðaúðun Suðurnesja ehf. 822-3577 · 699-5571 · 421-5571 netfang: bvikingur@visir.is
Aukum kvótann Miðað við fiskgengd á miðum í kringum landið í allan vetur eru tækifæri á að auka fiskveiðikvótann. Mæta verðlækkun á mörkuðum með auknu framboði svo halda megi í þær tekjur sem sjávarútvegurinn leggur til í þjóðarbúið. Við minnkuðum kvótann þegar vel áraði, nú þarf sú skerðing og rúmlega það að koma til baka. Stjórnvöldum ber að styðja við atvinnulífið og tryggja því það lagaumhverfi sem best nýtist því til sóknar. Að þessu þarf þing og þjóð að vinna saman. Alþingi þarf að skilja þarfirnar og tryggja íslenskum fyrirtækjum forskot til uppbyggingar arðbærrar starfsemi á sjó og í landi. Áfram Ísland! Ásmundur Friðriksson, alþingismaður.
Ég nota SagaPro Kristján Óskarsson, verkefnastjóri Vandamál: Bólgur í blöðruhálskirtli „Ég hef lengi notað SagaPro við bólgum í blöðruhálskirtli. Þegar ég finn fyrir einkennum tek ég góðan kúr af SagaPro í nokkrar vikur og þrýstingstilfinningin hverfur.“
Lonely Planet velur Víkingaheima „Top Choice“
V
íkingaheimar í Reykjanesbæ eru metnir „fyrsta val“ eða „Top choice“ í nýrri útgáfu Íslandsbókar frá stærsta ferðatímariti heims, Lonely Planet, þegar fjallað er um Reykjanes. „Hinir fallegu Víkingaheimar eru forn-norræn sýningarmiðstöð í hrífandi arkitektoniskri byggingu“, segir m.a. í lýsingu Lonely Planet. Miðdeplinum er að sjálfsögðu lýst sem Víkingaskipinu Íslendingi. Einnig er farið jákvæðum orðum um fornmuni og minjar sem sýndar eru á jarðhæð auk sýningarinnar um
Örlög guðanna. Þá er minnst á Landnámsdýragarðinn í nágrenni sýningarhússins. „Það er frábært að Víkingaheimar nái þessari jákvæðu umsögn frá jafn víðlesnum útgefanda ferðabóka. Við höfum lagt allt kapp á að skapa aðstæður hér í nágrenni flugvallarins sem hvetji ferðamenn til að staldra við í bænum okkar. Með þessum jákvæðu dómum um Víkingaheima er vonandi að myndast mikilvægur segull sem gerir það“, segir Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
www.sagamedica.is
14
fimmtudagurinn 23. maí 2013 • VÍKURFRÉTTIR
SPORTIÐ Njarðvík og Reynir á botninum
N
jarðvíkingar lágu á heimavelli fyrir Dalvík/Reyni í 2. deild karla en lokatölur urðu 1-2. Gestirnir komust yfir eftir að knötturinn hafði viðkomu í Guðmundi Steinarssyni eftir hornspyrnu snemma leiks. Mikið rok hafði töluverð áhrif á leikinn en Njarðvíkingar náðu að jafna metin fyrir hálfleik. Þar var á ferðinni Daníel Gylfason sem fylgdi eftir skoti. Í byrjun síðari hálfleiks skoruðu gestirnir aftur en lítið gekk hjá Njarðvíkingum. Viktor Unnar Illugason fékk sitt annað gula spjald og var honum því vísað af velli og því þyngdist róðurinn frekar hjá þeim grænklæddu. Njarðvíkingar hafa því tapað báðum deildarleikjum sínum og sitja á botni deildarinnar ásamt Reyni frá Sandgerði en hvorugu liðinu hefur tekist að krækja í stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Nú um helgina töpuðu Sandgerðingar 2-0 gegn Sindra frá Höfn í Hornafirði en Grindvíkingurinn Óli Stefán Flóventsson þjálfar Hornfirðinga. Bæði mörk Sindra komu í síðari hálfleik en Reynismönnum tókst ekki að skora í leiknum.
Grindavík lagði Hauka
G
rindavík vann góðan útisigur á Haukum í 1. deild karla um sl. helgi. Bakvörðurinn Jordan Lee Edridge skoraði mark Grindavíkur á 34. mínútu í 1-0 sigri þeirra gulklæddu. Grindavík lék án fyrirliðans Jóhanns Helgasonar sem er meiddur. Grindavík er þar komið með þrjú stig eftir tvær umferðir.
Hörður Sveinsson kemur Keflvíkingum í 2:1 með snyrtilegu marki. VFmynd: HBB
Frábær mórall í Keflavík – segir Andri Fannar sem fékk að líta rautt spjald. – Öðruvísi að leika í stöðu bakvarðar.
„Þetta var ömurlegt. Manni líður auðvitað aldrei vel með að vera rekinn út af,“ segir hinn 21 árs gamli nýliði Andri Fannar Freysson sem fékk að líta rauða spjaldið í leik Keflavíkur og Fylkis í Pepsi-deildinni í knattspyrnu sl. mánudagskvöld. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli. Andri Fannar var afar svekktur með að hafa verið rekinn af velli.. „Ég tók bara boltann en ekki leikmanninn eins og þetta lítur út frá sjónarhorni sjónvarpsmyndavélarinnar. Ég spurði Tryggva [Guðmundsson, leikmann Fylkis] eftir leikinn hvort ég hefði brotið á honum og hann viðurkenndi að ég hefði bara tekið boltann. Ég vona að þetta verði mitt fyrsta og eina rauða spjald.“ Andri var rekinn af velli undir lok fyrri hálfleiks en þrátt fyrir að leika einum leikmanni færri voru Keflvíkingar sterkari aðilinn það sem eftir lifði leiks. „Ég hélt að við værum að fara að vinna leikinn,“
segir Andri. Fylkismenn jöfnuðu leikinn þegar skammt var eftir og náðu í stig á Nettóvellinum.
Andri Fannar gengur af velli. VF-mynd: Ólafur Andri
Tækifæri á að bæta sig hjá Keflavík Andri Fannar er Njarðvíkingur en skipti yfir til Keflavíkur í vetur. Hann er ánægður með að vera mættur í deild þeirra bestu á Íslandi. „Það er frábær mórall hjá Keflavík. Hraðinn í deildinni er miklu meiri og ég hef tækifæri á að bæta mig mikið,“ segir Andri. Hann hefur leikið í bakverði í tveimur síðustu leikjum Keflavíkur. Andri er að upplagi miðju- eða kantmaður og hefur leikið í þeirri stöðu síðustu ár hjá Njarðvík. Hann viðurkennir að það séu viðbrigði að leika nú í stöðu bakvarðar. „Já, þetta er aðeins öðruvísi. Ég væri alveg til í að vera mjög sókndjarfur bakvörður,“ segir Andri og hlær. „Það fylgir meiri ábyrgð að leika í þessari stöðu þannig að ég get ekki alltaf farið í sókn. Það er
mismunandi eftir leikjum. Ég mun samt reyna að hlaupa upp kantinn þegar tækifæri gefst.“ Keflavík er með fjögur stig eftir fjóra leiki í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Í leiknum gegn Fylki fóru tvær vítaspyrnur forgörðum. Keflvíkingar náðu tvívegis forystunni með mörkum frá þeim Arnóri Ingva Traustasyni á 13. mínútu og Herði Sveinssyni á 77. mínútu. Keflvíkingar misstu Andra Fannar Freysson af velli á 41. mínútu með beint rautt spjald. Víti var dæmt og Andri Fannar sendur í sturtu. Sem betur fer fyrir Keflvíkinga þá varði David Preece vítaspyrnuna. Næsti leikur Keflavíkur er gegn Val á Vodafone-vellinum næstkomandi sunnudag. Keflavík er í 8. sæti deildarinnar með 4 stig en Valur er í 3. sæti með 8 stig. Sigur myndi lyfta Keflvíkingum af fallsvæðinu.
Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir
veitir ókeypis ráðgjöf í Heilsuhúsinu, Hafnargötu 27, Reykjanesbæ föstudaginn 24. maí milli kl. 15:00 og 18:00.
www.heilsuhusid.is
Hafnargata 27 s Keflavík s Sími 578 5560 Opið: mánud. - föstud. 10 -18
Keflvíkingar ráð bandarískan körfuboltaþjálfara -Þröstur L. Jóhannsson aftur til Keflavíkur
K
eflavík hefur gengið frá samningi við Andy Johnston um að þjálfa karla- og kvennalið félagsins næstu tvö árin. Ákveðið var að endurnýja ekki samning við Sigurð Ingimundarson sem þjálfaði bæði karla- og kvennalið Keflavíkur í vetur. Andy er 48 ára Bandaríkjamaður sem hefur mikla reynslu sem þjálfari en síðastliðin fimm ár hefur hann verið aðstoðarþjálfari hjá St. Francis College í NCAA í Bandaríkjunum. Tímabilið 2007-2008 þjálfaði hann lið PUHU í 1. deildinni í Finnlandi við góðan orðstír en vegna fjárhagsörðugleika liðsins hélt hann ekki áfram með þjálfun þess. Fram að tímabilinu í Finnlandi þjálfaði hann hjá hinum ýmsu háskólum í Bandaríkjunum. Ásamt því að þjálfa meistaraflokka félagsins mun Andy aðstoða við þjálfun hjá yngri iðkendum félagsins og miðla reynslu sinni inn í unglingastarfið. Þá mun hann vera öðrum þjálfurum félagsins til halds og trausts. Samkvæmt heimildum VF vildi félagið fá „nýtt blóð“ með nýjum þjálfara en það mun án efa vekja nokkra athygli að sigursælasti körfuboltaþjálfari landsins fær ekki endurnýjaðan samning. Keflavíkurliðið hefur fengið liðsstyrk að undanförnu en þrír leikmenn hafa bæst í hópinn en aðeins einn farið. Þetta eru þeir Guðmundur Jónsson sem lék síðustu tvö ár með Þór í Þorlákshöfn, Gunnar Ólafsson frá Fjölni og nú í gærkvöldi var skrifað undir samning við Keflvíkinginn Þröst Leó Jóhannsson. Hann lék tvo síðustu vetur á Sauðárkróki.
Sara Rún, Ingunn og Elvar hljóta eldskírn
Þ
jálfarar A-landsliðanna í körfubolta hafa valið þá 12 leikmenn sem munu leika fyrir Íslands hönd á Smáþjóðaleikunum sem hefjast 26. maí næstkomandi og fara fram í Lúxemborg. Suðurnesjamenn eiga fjölda fulltrúa sem verða með í för en að þessu sinni eru 12 leikmenn og þjálfarar í hópum karla og kvenna frá Suðurnesjum. Þar á meðal eru nýliðarnir frá Keflvíkingum, þær Sara Rún Hinriksdóttir og Ingunn Embla Kristínardóttir hjá kvennaliðinu og Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson hjá körlunum. Þeir Suðurnesjamenn sem skipa landslið karla og kvenna eru eftirfarandi: Landslið kvenna: Pálína Gunnlaugsdóttir – Keflavík Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík Ingunn Embla Kristínardóttir – Keflavík Bryndís Guðmundsdóttir – Keflavík Petrúnella Skúladóttir – Grindavík María Ben Erlingsdóttir – Saint Gratien, Frakklandi (Keflavík) Sverrir Þór Sverrisson – Þjálfari (Grindavík) Anna María Sveinsdóttir – Aðstoðarþjálfari (Keflavík) Landslið karla: Jóhann Árni Ólafsson – Grindavík Elvar Már Friðriksson – Njarðvík Magnús Þór Gunnarsson – Keflavík
*Suðurnesjamagasín
ag Næsta mánud .is og vf kl. 21:30 á ÍNN
15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 23. maí 2013
Falsaði skráningarmerki bifreiðar L
Átt þú þessi reiðhjól? F
jöldi óskilamuna berst lögreglu á ári hverju. Komist munirnir ekki til skila eru þeir boðnir upp. Síðast á mánudag fékk lögreglan í sína vörslu þessi tvö glænýju reiðhjól sem samkvæmt upplýsingum lögreglu hafa verið í Grænásbrekkunni í nokkra daga. Eigandi hjólanna getur vitjað þeirra hjá lögreglunni á Suðurnesjum gegn framvísun staðfestingar á eignarhaldi. Uppb o ð á óskilamunum í vörslum lögreglunnar verður haldið föstudaginn 31. maí nk. klukkan 15.00 við lögreglustöðina í Keflavík, Hringbraut 130. Aðallega er um að ræða reiðhjól. Hér með er skorað á þá sem hafa glatað reiðhjólum og öðrum munum að athuga hjá okkur hvort þar sé hlutina að finna.
ögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af fjórum ökumönnum sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra, sem reyndist hafa neytt kannabisefna, var á ótryggðri bifreið. Þegar lögreglumaður var að taka skráningarmerkin af henni veitti hann því athygli að átt hafði verið við þau. Ökumaðurinn, karlmaður á fertugsaldri,
viðurkenndi þá að hafa fengið skráningarmerki hjá vini sínum, sagað plötuna þannig að hann náði skoðunarmiðanum af og festi hann á sín eigin skráningarmerki til að svindla á skoðun. Þá var tæplega fertug kona stöðvuð þar sem hún ók án þess að hafa endurnýjað ökuréttindi sín. Er það í níunda skiptið sem lögregla hefur afskipti af henni vegna sama brots.
FRÉTTIR
Styrkja heimildaþætti um Suðurnes
B
æjarráð Sveitarfélagsins Garðs hefur samþykkt samhljóða að veita 300.000 kr. styrk vegna framleiðslu á tveimur heimildaþáttaröðum á Suðurnesjum. Það er Guðmundur Magnússon, kvikmyndagerðarmaður í Garði, sem stendur að framleiðslu þáttanna. Bæjarráð fagnar þörfu framtaki við varðveislu sögu Suðurnesja.
Pottormarnir mættir Jarðvegsdúkur 10x1,2 m
Tréolía 3O, 3 lítrar á pallinn og annað tréverk
2.690
1.350
Garðkarfa 25L
Garðkarfa 65L
990
1.990
UPPBOÐ
Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Einidalur 7 fnr. 230-0713, Njarðvík, þingl. eig. Jörgen Friðrik Eiríksson og Jenný Lára Magnadóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Reykjanesbær og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 30. maí 2013 kl. 10:00. Hvammsdalur 3 fnr. 226-4851, Vogar, þingl. eig. Ægir Geirdal Gíslason, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, LEX ehf og Sveitarfélagið Vogar, fimmtudaginn 30. maí 2013 kl. 10:20. Njarðvíkurbraut 2 fnr. 209-3964, Njarðvík, þingl. eig. Db. Helga Bergljót Magnúsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 30. maí 2013 kl. 09:40. Strandgata 14 fnr. 209-5013, Sandgerði, þingl. eig. Melaberg ehf, gerðarbeiðendur Hannarr ehf, Sandgerðisbær og Vátryggingafélag Íslands hf, fimmtudaginn 30. maí 2013 kl. 09:40. Þrastartjörn 18 fnr. 230-9608, Njarðvík, þingl. eig. ÞT ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Reykjanesbær, fimmtudaginn 30. maí 2013 kl. 09:50. Sýslumaðurinn í Keflavík, 21. maí 2013. Ásgeir Eiríksson, sýslumannsfulltrúi.
Ø=18cm
545
145
WZ-9006 Greinaklippur
690
1.470
890
995
Malarhrífa verð frá
2.690
1.890
Sýslumaðurinn í Keflavík Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s: 4202400
695
Portúgalskir leirpottar í úrvali - Gæðavara Verð frá kr. 145 Undirdiskar fáanlegir
Ø=50cm
Strákústur 30cm breiður
Laufhrífa
690
Black&Decker háþrýstidæla max bar 110
14.990,-
Garðverkfæra hirsla 52x32x20 cm
1400W, 360 lítr./klst. Þolir 50°C heitt vatn 5 metra barki, sápubox
1.390
Black&Decker háþrýstidæla max bar 130
28.990,-
390
1700W, 370 lítr./klst. Þolir 50°C heitt vatn 5,5 metra barki, sápubox
Moltutankur grænn 350 l
8.900
Turbokalk 12,5 kg
590 2.590 Flúðamold 20 l
Mako sterkir ruslapokar 120 lítrar 10stk
Blákorn 5 kg
1.490 MIKIÐ ÚRVAL AF
RISAPOTTUM
Kalkkorn 5 kg
798 1.990 1.390
1.970
WZ-9019 Greinaklippur
1.490
110 cm
1.390
WZ-9008 Hekk klippur 8”
12 lítra fata
298
1.690
2012
Fuglavík 18. Reykjanesbæ Opið virka daga kl. 8-18
Sími 421 1090 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Neytendur athugið! Múrbúðin selur allar vörur sínar á lágmarksverði fyrir alla, alltaf. Gerið verð- og gæðasamanburð!
vf.is
fimmtuDAGURINN 23. maí 2013 • 20. tölublað • 34. árgangur
FIMMTUDAGSVALS VALUR KETILSSON SKRIFAR
M
Teygja lopann
ig vantaði tilfinnanlega hlýja peysu með mér í rakann og kuldann suður á Spáni. Hver fer með svoleiðis með sér til sólarlanda? Ekki ég. Datt það ekki í hug. Mér var samt hugsað til lopapeysunnar og flíspeysanna heima í skáp þegar ósköpin dundu yfir. Íslensku ullarinnar, sem tengdó prjónaði handa mér fyrir nokkrum árum. En svo mundi ég það allt í einu. Ég gleymdi peysunni á ættarmóti síðastliðið sumar. Að ég held. Kannski fékk einhver hana lánaða. Í svölu grillveislunni á Arnarstapa. Hlý og góð. Svört með hvítu tíglamynstri. Hneppt.
E
kta lopaveður þessa dagana. Meira að segja Hómer Simpson klæddist einni slíkri um helgina. Ameríka horfði dolfallin á heimilisföðurinn frá Springfield og vini hans skarta alíslenskum prjónapeysum í litadýrð norðurljósanna. Ég minntist á týndu skikkjuna mína við frúna og fullvissaði hana um að sumarið yrði ekki samt ef engin væri lopapeysan. Ómissandi á síðsumarkvöldum. „En flísin kemst ekki í hálfkvisti við íslenska lopann“ svaraði ég um hæl, þegar hún tíndi út Didriksons, Regatta og 66° Norður peysurnar í öllum litum út úr fataskápnum mínum. Ég yrði að sannfæra hana, jafnvel þó fingurnir og úlnliðirnir væru slæmir. Árans gigtin.
Á
rið 1986 álíka stórt á íslenskan heimsmælikvarða eins og skákeinvígi Fishers og Spassky fjórtán árum áður. Leiðtogafundurinn hjá Regan og Gorbatsjov í hámælum. Umheimurinn snýst um Reykjavík og Ísland. Landinn ekki séð jafnstóra heimspressu í háa herrans tíð. Minjagripir seljast eins og heitar lummur. Íslenskur lopamarkaður í blóma. Fluttur út vikulega í tonnavís með flugi. Ingvi Hrafn malar klukkutímunum saman með sjónvarpsvélarnar límdar á útidyrahurðinni í Höfða. Álafoss lopaverksmiðjan ein af mörgum sem sér gull í gestakomunni. Ákveða að prjóna lopapeysur í anda leiðtogafundarins. Mæja vinkona og starfskraftur kynnir hönnunina. Vekur óskipta athygli. Skömmu síðar er ég myndaður alsaklaus fyrir utan Héraðsdóm Reykjavíkur í Álafoss lopa. Alhvítri tískupeysu með svartri V-línu. Án mynda af forsetum stórveldanna. Peysa vikunnar í Vikunni.
É
g setti mig í gamalkunnar stellingar fyrir frúna. Ekki með sítt að aftan lengur. En með stút á munni. Hún stóðst ekki mátið. Keypti prjónablað um hæl. Við völdum sameiginlega munstur númer þrjú. Litirnir dökkblár, ljósblár og hvítgrár. Prjónafesta 13L og 18 umferðir slétt prjón á hringprjóna númer sex. Bolur, ermar og axlastykki prjónuð í hring. Stroffið slétt og brugðið, endurtekið. Hálslíning með minni prjónum. Frágangur afskaplega einfaldur. Ganga vel frá öllum lausum endum. Lykkja saman undir höndum. Sé fram á að teygja lopann í sumar.
Nota útblástur iðnvera í vistvæna framleiðslu
G
rænn efnavinnslugarður er í undirbúningi í Helguvík, sem yrði samhliða uppbyggingu álvers og kísilvers. Reykjanesbær og fyrirtækið Carbon Recycling hafa gert með sér viljayfirlýsingu um uppbyggingu slíks garðs sem m.a. nýtir úrgang verksmiðja til eldsneytis- og efnaframleiðslu. Þetta kom m.a. fram á íbúafundum með bæjarstjóra sem nýlokið er í Reykjanesbæ. Vistvænn eða grænn efnavinnslugarður er staður þar sem nokkur efnavinnslufyrirtæki eru tengd saman á þann hátt að eitt fyrirtæki notar hliðarafurðir og útblástur nágrannans til að framleiða verðmæta vöru og þannig koll af kolli. „Á sama hátt og menn sjá hvernig unnt er að nýta þorskinn, ekki aðeins með því að flaka hann, selja flökin en henda öðru, hefur verið sýnt fram á að með því
að nýta það sem áður var hent, verða til mun fleiri og verðmætari vörur og verðmætari störf. Hugmyndin er því eins og í fullvinnslu sjávarafurða, þar sem meira að segja slógið er orðið að dýrmætu efni eftir meðhöndlun. Hér er stefnt á að nýta útblástur og úrgangsefni frá kísilveri og álveri sem vistvænt hráefni fyrir aðrar verksmiðjur“, segir Árni. Fyrirtækið CRI framleiðir nú eldsneyti m.a. úr koltvísýringi í Svartsengi. Annað fyrirtæki Atlantic Green Chemistry - AGC mun nýta afgangsafurðir úr iðnaði og hefur gengið í gegnum umhverfismat í Helguvík. Það hyggst framleiða vistvænt glykol. Það er meðal annars notað sem afísingarvökvi fyrir flugvélar, framleitt m.a. úr gufu og útstreymi frá kísilveri. „Allt byggir þetta þó á því að grunngreinarnar nái að komast á legg“, segir Árni.