Skip to main content

20 tbl 2016

Page 1

• Fimmtudagurinn 19. maí 2016 • 20. tölublað • 37. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Ellert fyrsti heiðursborgari Reykjanesbæjar n Hótel Keflavík og Diamond Suites.

Fyrstu fimm stjörnurnar í Keflavík n Þr játíu ár a af mæli Hótels Keflavíkur var fagnað á þriðjudag. Af því tilefni var Diamond Suites formlega opnað en það er á efstu hæð hótelsins og er fyrsta fimm stjarna hótelið á Íslandi. Á hótelinu eru fimm svítur og stofa. Gestir geta leigt eina og eina svítu eða alla hæðina sem er 280 fermetrar. Að sögn Steinþórs Jónssonar, eiganda og hótelstjóra á Hótel Keflavík, hefur vantað slíka lúxusgistingu hér á landi. Nánar er fjallað um tímamótin hjá Hótel Keflavík í blaðinu í dag.

Ellert Eiríksson, fyrsti bæjarstjóri Reykjanesbæjar var í vikunni útnefndur fyrsti heiðursborgari bæjarfélagsins. Útnefningin fór fram á 500. fundi Reykjanesbæjar. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri afhenti Ellerti blóm og skjal af þessu tilefni. Ellert byrjaði snemma við hin ýmsu störf í Keflavík, rakaði ungur grjót og var m.a. bæjarverkstjóri áður en hann varð sveitarstjóri í Gerðahreppi 1982 til 1990. Ellert varð fyrsti bæjarstjóri Reykjanesbæjar eftir sameininguna

árið 1994 en hann hafði þá verið bæjarstjóri Keflavíkur frá árinu 1990. Ég held að stærsta málið sem kom að á mínum ferli sem bæjarstjóri og sveitarstjórnarmaður hafi verið sameining Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna í sveitarfélagið Reykjanesæ. Það var góð ákvörðun og hefur marg sannað sig,“ sagði Ellert sem fer aðeins yfir ferilinn í viðtali í þætti vikunnar hjá Sjónvarpi Víkurfrétta. Hann var m.a. spurður út í frekari sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum.

n Ellert Eiríksson með hinum tveimur bæjarstjórum Reykjanesbæjar, Árni Sigfússyni og Kjartani Má Kjartanssyni. VF-mynd/pket.

Ígildi álvers

Vaxandi hjólamenning á Suðurnesjum

n Airport Associates er flugafgreiðslufyrirtæki sem hefur vaxið hægt en örugglega á Keflavíkurflugvelli undanfarna næstum tvo áratugi. Fyrirtækið hefur þurft að bregðast við örum vexti í flugsamgöngum um Keflavíkurflugvöll og m.a. þurft að leita út fyrir landssteinana eftir vinnuafli. Þá hefur fyrirtækið fest kaup á tveimur fjölbýlishúsum á Ásbrú til að tryggja starfsfólki húsnæði. Í sumar verða starfsmenn þess um 520 talsins og því má segja að þetta ört vaxandi fyrirtæki sé orðið ígildi álvers. Nánar er fjallað um Airport Associates í Sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld kl. 21:30.

n Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Gera hlé á krabbameinsleit hjá HSS n Vegna anna á ljósmæðravakt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verður ekki boðið upp á krabbameinsleit þar í sumar. Að sögn Halldórs Jónssonar, forstjóra HSS, var ákveðið að gera hlé á leitinni vegna ófyrirséðrar manneklu fram til loka ágúst. Boðið hefur verið upp á hefðbundna leit að frumubreytingum í leghálsi og hafa ljósmæður séð um að framkvæma skoðunina. Framkvæmdar hafa verið 12 til 15 skoðanir á mánuði og er konum bent á að snúa sér til Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík þar til í lok sumars þegar aftur verður boðið upp á krabbameinsleit á HSS.

Grindvíkingar tróna á toppnum

n Helgi Valdimar Viðarsson Biering segist hafa farið af stað með hjólreiðaverkstæði sitt vegna þess að hann átti í erfiðleikum með að finna stað þar sem hann gæti látið gera við hjólið sitt. „Þar sem að ég er vélvirki þá lét ég það ekkert stoppa mig,“ segir Helgi sem undanfarin fimm ár hefur séð um að gera við reiðhjól fyrir íbúa Suðurnesja. Í Víkurfréttum í dag er umfjöllun um hjólreiðamenninguna á Suðurnesjum þar sem púlsinn er tekinn bæði á hjólafólki og einnig á aðilum sem sérhæfa sig í viðgerðum á reiðhjólum. Sjá nánar síðum 10-11 í blaðsinu í dag.

n Grindvíkingar hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í 1. deildinni í fótbolta og tróna á toppnum ásamt Leiknismönnum. Þjálfarinn Óli Stefán Flóventsson er að vonum sáttur við gengið og segir stefnuna tekna upp í efstu deild eftir fjögur mögur ár í næst efstu deild. „Það er jákvætt að við séum að byrja mótið sterkar en oft áður,“ segir Óli. Nánar er rætt við Óla í blaðinu í dag.

ÍLS selur 108 íbúðir á Suðurnesjum l Söluandvirði var 1.699 milljónir króna l Íbúðalánasjóður á enn 242 íbúðir á Suðurnesjum

n Víðismenn unnu öruggan 0-3 sigur á grönnum sínum 3. deildinni í fótbolta karla um helgina en leikurinn fór fram í Sandgerði. „Þetta var það sem við lögðum upp með, að halda hreinu hjá okkur. Við vorum örlítið hissa á að mótspyrnan hafi ekki verið meiri en raun bar vitni,“ segir Björn Bergmann Vilhjálmsson fyrirliði Víðis. „Afmælisveislan er bara rétt að byrja. Þetta verður svona í allt sumar. Við ætlum að gera mun betur en spár gerðu ráð fyrir,“ bætti fyrirliðinn kokhraustur við. - Sjá nánar á íþróttasíðu.

FÍTON / SÍA

„Afmælisveislan er rétt að byrja“

Íbúðalánasjóður hefur selt 108 íbúðir á Suðurnesjum í stærsta einstaka opna söluferli í sögu sjóðsins sem nú er yfirstaðið. Söluandvirði íbúðanna á Suðurnesjum var 1.699 milljónir króna. Sjóðurinn seldi 356 íbúðir um land allt. Íbúðirnar voru auglýstar í opnu söluferli og fara þær að stóru leyti til leigufélaga sem hyggjast leigja þær út áfram. Heildarsöluverðmæti íbúðanna allra nemur 6.414 milljónum króna sem er 864 milljónum króna yfir skráðu virði þeirra í

einföld reiknivél á ebox.is

bókum sjóðsins. Sjóðurinn á nú um 900 íbúðir, þar af 242 á Suðurnesjum og stefnir á að selja meirihluta þeirra fyrir lok ársins. Íbúðirnar á Suðurnesjum voru seldar í þremur eignasöfnum. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að aðallega séu þetta íbúðir sem lent höfðu í fangi hans vegna efnahagshrunsins. Þær elstu hafa verið í eigu sjóðsins í um átta ár. Opið söluferli, þar sem allir áhugasamir kaupendur gátu komið að, hófst í desember síðastliðnum. Um

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

hundrað aðilar kynntu sér söluferlið og rúmlega fjörutíu tilboð bárust. Alls voru boðnar til sölu eignir í 15 eignasöfnum en tilboðum í fjögur þeirra var hafnað þar sem þau reyndust vera langt undir matsverði Íbúðalánasjóðs. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að áfram verði unnið að sölu þeirra eigna sem ekki fengust nógu há tilboð í í samvinnu við fasteignasala á viðkomandi stöðum um landið. Mikill meirihluti af sölu fasteigna sjóðsins undanfarin ár hefur verið til einstaklinga og fer fram í gegnum samstarf sjóðsins við félag fasteignasala.

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.


2

VÍKURFRÉTTIR

LAUS STÖRF Íþróttamannvirki Reykjanesbæjar. 100% staða karla og 50% staða kvenna í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur frá 22. ágúst nk. 100% staða karla í Sundmiðstöð frá 1. júní nk. og 100% staða karla í Íþróttahúsinu við Sunnubraut frá 22. ágúst nk. Öll störfin eru vaktavinna og heilsársstörf. Nánari upplýsingar gefur Hafsteinn Ingibergsson forstöðumaður íþróttamannvirkja, s. 899-8010. Leikskólakennari. Leikskólinn Holt óskar eftir kraftmiklum leikskólakennara frá og með 1. ágúst nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiða Ingólfsdóttir leikskólastjóri s. 420-3175/896-6104 eða netfangið heida. ingolfsdottir@leikskolinnholt.is. Umsóknum í ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin.

SUMAR Í REYKJANESBÆ Vefritið Sumar í Reykjanesbæ er komið á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Þar má nálgast upplýsingar um það sem er í boði fyrir börn og ungmenni í Reykjanesbæ í sumar. Gleðilegt sumar.

BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR HJÓLREIÐAVERKSTÆÐI

Laugardaginn 21. maí frá klukkan 12:00 – 14:00 kemur Helgi úr Hjólreiðaverkstæðinu Hjólabúðinni í bókasafnið. Hann aðstoðar hjólagarpa við að pumpa í dekk og smyrja keðjur. FLUGUHNÝTINGAR Þriðjudaginn 24. maí klukkan 19.30 kemur Júlíus úr Flugukofanum og kennir gestum að hnýta veiðiflugur. Allt efni verður á staðnum og allir áhugasamir hjartanlega velkomnir.

ÞÁTTTAKA Í HREYFIVIKU

fimmtudagur 19. maí 2016

Ellert Eiríksson er fyrsti heiðursborgari Reykjanesbæjar Ellert Eiríksson, fyrsti bæjarstjóri Reykjanesbæjar, var í vikunni gerður að fyrsta heiðursborgara bæjarfélagsins. Tilkynnt var um þetta á fimm hundruðasta bæjarstjórnarfundi Reykjanesbæjar sem haldinn var á þriðjudag. Á fundinum flutti Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri eftirfarandi erindi um Ellert: Ellert Eiríksson er Suðurnesjamaður í húð og hár og hefur lengst af búið í Keflavík, síðan Reykjanesbæ. Hann fæddist 1. maí 1938 að Járngerðarstöðum í Grindavík, sonur Hansínu Kristjánsdóttur og Eiríks Tómassonar. Eftir andlát Eiríks fluttist fjölskyldan til Keflavíkur. Þá var Ellert þriggja ára og hefur hann verið búsettur hér síðan. Ellert var í fyrsta útskriftarhópnum úr Gagnfræðaskólanum í Keflavík, sem var fyrirrennari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Ellert varð snemma pólitískur og var aðeins 12 ára gamall þegar hann gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Þar urðu störfin fjölmörg og naut flokkurinn lengi krafta Ellerts. Ellert átti til að mynda sæti á framboðslistum flokksins í Reykjaneskjördæmi til þings og náði fyrsta varamannssæti árið 1987. Ellert hefur einnig komið víða við í atvinnulífinu. Hann hóf störf hjá Keflavíkurbæ árið 1952 sem flokkstjóri í unglingavinnu yfir sumarið, sem þá var starfrækt í fyrsta sinn. Því starfi sinnti Ellert samhliða verkamannavinnu. Ellert hefur einnig starfað sem messagutti, kokkur, barþjónn og verið lærlingur hjá bandarísku verktakafyrirtæki í slitlagagerð á þjóðvegum og hraðbrautum.

Ellert með eiginkonu sinni, Guðbjörgu Sigurðardóttur, dótturinni Guðbjörgu og fósturdótturinni Unu Björk.

Ellert kom aftur til starfa hjá Keflavíkurbæ á sjöunda áratugum og starfaði fyrst sem flokksstjóri, síðan yfirverkstjóri hjá Áhaldahúsi Keflavíkurbæjar. Ellert var fulltrúi eiganda við byggingu þessa húss hér, Tjarnargötu 12. Ellert var sveitastjóri Gerðahrepps á árunum 1982 til 1990 og Keflavíkur 1990 til 1994 eða þar til Keflavík sameinaðist Njarðvík og Höfnum undir Reykjanesbæ árið 1994. Ellert var því fyrsti bæjarstjóri Reykjanesbæjar og gegndi því starfi til ársins 2002. Í störfum sínum sem bæjarstjóri kom Ellert að mörgum stórum og erfiðum málum. Má þar nefna sameiningu sveitarfélaganna þriggja í Reykjanesbæ og stóra nafnamálið þar, einsetningu grunnskóla og stórbætta húsnæðisað-

Nánari upplýsingar um Hreyfivikuna er hægt að nálgast á www.umfi.is.

VORTÓNLEIKAR TR

Allir hjartanlega velkomnir.

LOK LISTAHÁTÍÐAR Listahátíð barna í Duus Safnahúsum er enn í fullum gangi en lýkur um helgina þannig að nú fer hver að verða síðastur með að sjá sýningarnar. Nemendur leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla eiga verk á sýningunni og húsið er opið frá 12.00-17.00 alla daga.

Ellert hefur alla tíð starfað mikið að félagsmálum, pólitískum og ópólitískum. Hér má nefna JC Suðurnes og Lionsklúbb Keflavíkur og undir þeirra merkjum hefur hann starfað sem fulltrúi bæði hér heima og erlendis. Ellert Eiríksson er vel að þessum heiðri kominn.

Leikfélag Keflavíkur gerir upp veturinn

Reykjanesbær tekur þátt í hreyfiviku UMFÍ 23. – 29. maí nk. og hefur skráð sig til leiks í sundkeppni milli sveitarfélaga. Sundlaugargestir getað skrá sig daglega í afgreiðslu sundmiðstöðvar hversu marga metra þeir syntu. Árskort í boði fyrir heppinn þátttakanda. Stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og íþrótta- og tómstundafélög í Reykjanesbæ eru hvött til þátttöku í Hreyfivikunni. Hægt er að senda tilkynningu um þátttöku á fjorheimar@reykjanesbaer.is.

Barnakór í Bergi 18. maí kl. 17:00. Söngdeild í Bergi 23. maí kl. 18:00. Bjöllukór í Bergi 24. maí kl. 19:30. Lúðraveitir í Stapa 25. maí kl. 18:00. Skólaslit í Stapa 26. maí kl. 18:00.

stöðu skólanna, byggingu Reykjaneshallar, samningagerðir við Varnarliðið um sorpeyðingu, frárennslismál, brunavarnir, heilbrigðismál, afnot af Helguvíkurhöfn og almenn samskipti við yfirmenn Varnarliðsins og kaup á Duus húsum og landi undir smábátahöfn í Gróf eftir langt og strangt samningaferli.

Eldur í mosa og gömlum fiskhjöllum ■■Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur voru kölluð út vegna elds í gömlum fiskhjöllum og mosa utan við Grindavíkurveg sl. Laugardag. Fjölmargar tilkynningar bárust Neyðarlínunni vegna brunans en talsverður eldur var í mosanum og rústum fiskhjallanna. Slökkviliðin notuðust bæði við vatn og sérstakar klöppur til að ráða niðurlögum eldsins. Eldur í mosa er erfiður viðureignar og mátti sjá reyk stíga upp frá brunasvæðinu í margar klukkustundir á laugardaginn.

VF-mynd: Hilmar Bragi

Ný vefsíða Duus Safnahúsa ■■Á slóðinni www.duusmuseum.is hefur nýr vefur Duus Safnahúsa litið dagsins ljós. Þar er að finna upplýsingar um þær sýningar sem eru yfirstandandi hverju sinni og þá viðburði sem framundan eru auk margs konar hagnýtra upplýsinga svo sem um opnunartíma og aðgangseyri. Duus Safnahús eru menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar og þau hýsa aðal sýningarsali safnanna í bænum, Byggðasafns Reykjanesbæjar og Listasafns Reykjanesbæjar. Þar er einnig að finna upplýsingamiðstöð ferðamanna, Geststofu Reykjaness jarðvangs, Bátaflota Gríms Karlssonar auk fleiri sýninga. Þá eru Duus Safnahús einnig komin á Facebook og Instagram.

■■Leikfélag Keflavíkur hefur eins og undanfarin ár haft nóg fyrir stafni í vetur en í Frumleikhúsinu voru settar upp tvær sýningar, Rauðhetta og úlfurinn og Eitt töfrateppi, takk. Báðar þessar sýningar hlutu afbragðs góða gagnrýni en áhorfendur hefðu mátt vera fleiri. Au k þ e s s tóku félagsmann þátt í hefðbundnum d a g s k r á rliðum á Þrettándagleði, 17. júní og Ljósanótt. Vetrinum verður lokað með aðalfundi fimmtudaginn 19. maí klukkan 20:00 í Frumleikhúsinu. Á fundinum verður farið yfir veturinn auk þess sem nýir félagar verða skráðir. Stjórnin hvetur alla áhugasama félaga til þess að mæta og líka þá sem vilja ganga til liðs við Leikfélag Keflavíkur.


Prófaðu Fabiu í sólarhring Raf / Bensín Ekinn þús. km. Myndir á vef Dísil Fjórhjóladrif Metan & bensín Sjálfskiptur Beinskiptur Rafmagnsbíll

ŠKODA Fabia býr yfir ótal kostum, en fögur orð og fyrirheit koma ekki í staðinn fyrir persónulega reynslu. Því langar okkur að lána þér Fabiu í sólarhring. Komdu við hjá okkur eða sendu póst á skoda@hekla.is og fáðu nýja ŠKODA Fabiu til reynslu í 24 tíma. Hlökkum til að sjá þig.

Verð frá aðeins

2.290.000 kr. HEKLA · Njarðarbraut 13 · Reykjanesbæ · Sími 590 5090 · heklarnb.is

www.skoda.is


markhönnun ehf

D

A D G R A I R K S N A 12. – 22 m aí

40%

FERSKUR GRÍSABÓGUR VERÐ ÁÐUR 998 KR/KG

AFSLÁTTUR

599

KR KG

FL

20%

50%

KJÖTBORÐ

AFSLÁTTUR

AFSLÁTTUR

FERSKT - SVÍNALUNDIR VERÐ ÁÐUR 2.998 KR/KG

1.499

KR KG

VERÐ ÁÐUR 998 KR/KG

798

KR KG

UNGNAUTA ROAST BEEF

KÁLFA RIB EYE Í HEILU

VERÐ ÁÐUR 2.798 KR/KG

NAUTALUND

VERÐ ÁÐUR 3.359 KR/KG

3.191

Verðspreng ja

GRÍSARIF

VERÐ ÁÐUR 4.298 KR/KG

KR KG

3.868

KR KG

2.658

KR KG

Sort, hvide o.s. videre KJÚKLINGASALAT - 175 G EGGJASALAT- 175 G

379

KR PK

379

KR PK

SKINKUSALAT - 175 G

379

KR PK

TÚNFISKSALAT - 175 G

379

KR PK

CASTELLO OSTAR MIKIÐ ÚRVAL

Tilboðin gilda 12. – 22. maí 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


40%

AFSLÁTTUR

R

F

BAYONNESKINKA VERÐ ÁÐUR 1.996 KR/KG

1.198

KR KG

FLEIRI TILBOÐ Í BÆKLINGNUM!

30%

20%

KJÖTBORÐ

AFSLÁTTUR

AFSLÁTTUR

SVÍNASÍÐA MEÐ PURU

GRÍSAHRYGGUR M/PURU VERÐ ÁÐUR 1.998 KR/KG

VERÐ ÁÐUR 1.798 KR/KG

1.259

1.598

KR KG

BÖKUNARKARTÖFLUR VERÐ ÁÐUR 199 KR/KG

139

KR KG

50%

733 KR/KG

AFSLÁTTUR

BLÁBERJAFATA 500 G VERÐ ÁÐUR 1.598 KR/KG

799

KR PK

KR KG

KJÚKLINGANAGGAR 1 KG POKI

KJÚKLINGABORGARI 1 KG POKI

KJÚKLINGAPOPPKORN 1 KG POKI

KJÚKLINGAUPPLÆRI M. BEINI - 1.5 KG POKI

1.494

1.976

1.582

1.099

VERÐ ÁÐUR 1.698 KR/PK

KR PK

VERÐ ÁÐUR 2.298 KR/PK

KR PK

VERÐ ÁÐUR 1.798 KR/PK

KR PK

VERÐ ÁÐUR 1.249 KR/PK

KR PK

re

R

DÖNSK SALAMI PYLSA 8 TEGUNDIR - 300 G

JOLLY COLA 33 CL

99

KR STK

EKTA DÖNSK SÍLD MIKIÐ ÚRVAL

698

KR PK

www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss


6

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 19. maí 2016

Smíða leikföng og gefa leikskólum Nemendur Smíðasmiðjunnar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja hafa í vetur smíðað ýmis leikföng og afhent leikskólum á Suðurnesjum að gjöf. Leikföngunum hefur verið vel tekið á leikskólunum og segir Gunnar Valdimarsson, kennari við FS, að ánægjan sé ekkert minni hjá sínum nemendum sem smíðað hafa leikföngin. „Við höfum gantast með það við nemendur að það séu ef til vill aðeins nokkur ár í að þeir fari með sín börn á leikskólann og sjái þá leikföngin sem þeir smíðuðu. Margir eiga líka systkini og frændsystkini á leikskólunum svo það hafa oft verið innilegir fagnaðarfundir þegar við mætum að afhenda leikföngin,“ segir hann. Smíðasmiðjan hefur verið starfrækt í þrjú ár. Nemendur hennar hafa stundað fornám við FS. „Þetta er hópur sem unnið er sérstaklega með. Hugmyndin er að í Smíða-

smiðjunni smíðum við hluti sem gagnast öðrum. Nemendurnir hafa kannski ekki fengið mikið hrós í sínu námi í gegnum tíðina en í Smíðasmiðjunni upplifa þeir að gera gagn og gleðja aðra með verkum sínum,“ segir Gunnar. Nokkrir nemendur hafa hafið nám í smíðum og öðrum greinum í framhaldinu. Leitað var eftir hugmyndum frá starfsfólki leikskóla um hvað gæti nýst þar. Nemendur Smíðasmiðjunnar hafa smíðað púsl, gröfur, hlaupahjól, trébíla og lestir, svo nokkur dæmi séu nefnd. Eins og áður sagði hafa allir leikskólar á Suðurnesjum fengið gjafir frá Smíðasmiðjunni. Reyndar varð einn leikskóli á Ásbrú útundan, en einfaldlega vegna þess að skipuleggjendur vissu ekki af honum. En úr því verður bætt með tíð og tíma þannig að allir leikskólar á Suðurnesjum eigi leikföng frá Smíðasmiðjunni.

Magnús og Sigurður ásamt Kristínu Lindu Árnadóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar. Myndin var tekin á frumsýningu heimildarmyndarinnar Maðurinn sem minnkaði Vistsporið sitt.

ÞETTA SNÝST UM

SAMTAKAMÁTT ÞJÓÐARINNAR ●●Mæla vistspor og reyna að fá fólk til að lifa sjálfbæru lífi

Bræðurnir Sigurður og Magnús Jóhannessynir úr Keflavík frumsýndu á dögunum heimildarmyndina Maðurinn sem minnkaði vistsporið sitt. Þeir fylgja myndinni nú eftir með því að setja á fót stofnunina Sjálfbært Ísland sem, eins og nafnið gefur til kynna, hefur það að markmiði að gera íslenskt samfélag sjálfbært. „Það er tvennt sem við hyggjumst gera til að nálgast þetta markmið, í fyrsta lagi að reyna að fá fólk til að langa að lifa sjálfbæru lífi og hins vegar að aðstoða það við meta hvort líf þess sé innan eða utan sjálfbærnimarka með mælingum á Vistspori þess,“ segir Magnús. Reiknivél fyrir vistspor

Vistspor er aðferð til að mæla umhverfisáhrifin sem verða af neyslu í daglegu lífi en flestir Vesturlandabúar lifa umfram það sem þeir ættu að gera. Sjálfbært Ísland stefnir að því að bjóða upp á reiknivél fyrir íslenskar aðstæður á vefsíðu sinni þar sem almenningur getur slegið inn upplýsingar um sitt daglega líf og þannig gróflega mælt Vistsporið sitt, sér að kostnaðarlausu. Einnig verður boðið upp á nákvæmari útreikning og ráðgjöf um það hvernig fólk geti minnkað Vistsporið sitt og er áætlað að slík ráðgjöf kosti um 15.000 krónur. Þeir hafa gert samstarfssamning við Global Footprint Network sem er leiðandi á heimsvísu á sviði Vistsporsmælinga en fyrirtækið hefur unnið að slíkum mælingum með 62 þjóðum. „Vinna þeirra hefur þó mestmegnis verið með stjórnvöldum þessara landa. Við Íslendingar höfum einstakt tækifæri, vegna smæðar okkar, til að ná betur til almennings og ná fram raunverulegri breytingu hjá þjóðinni, ekki bara hjá yfirvöldum. Íslendingar eru oft fljótir að taka upp nýjungar og vonandi verður það einnig þannig með þetta,“ segir Magnús.

Halda áfram að fræða

Eins og áður sagði frumsýndu þeir fyrstu heimildarmynd sína um sjálfbærni á dögunum. Hún fjallaði um það hvernig Sigurður reyndi að minnka Vistsporið sitt yfir sex mánaða tímabil en það var töluverð áskorun í neyslusamfélaginu á Íslandi. Þeir ætla að halda áfram að framleiða fræðsluefni í anda heimildarmyndarinnar. Þeir segja mikilvægt að slíkt fræðsluefni sé byggt á vísindalegri þekkingu

Íslendingar eru oft fljótir að taka upp nýjungar og vonandi verður það einnig þannig með þetta Sigurður og Magnús frumsýndu á dögunum heimildarmyndina Maðurinn sem minnkaði vistsporið sitt. Nú er hægt að sjá myndina á netinu gegn vægu gjaldi. Þeir bjóðast einnig til að koma á vinnustaði, sýna myndina og sitja fyrir svörum eftir á. Nánari upplýsingar um myndina má nálgast á vefsíðunni www.manwhoshrunk.com

en sé líka sett fram á jákvæðan, uppbyggilegan og ekki síst skemmtilegan hátt. Enda sé skemmtanagildi forsenda þess að fólk geti meðtekið hinn erfiða boðskap um óhjákvæmilegar breytingar sem allir þurfa að tileinka sér í nánustu framtíð, eigi ekki að fara illa fyrir jörðinni og íbúum hennar. Sigurður er umhverfisfræðingur og stundar nú doktorsnám í faginu við Háskóla Íslands. Magnús er rekstrarhagfræðingur og hefur á undanförnum árum unnið að ýmsum verkefnum sem tengjast umhverfisvænni orku. Daglegt líf þeirra er breytt eftir gerð heimildarmyndarinnar og eru þeir nú mjög meðvitaðir um vistsporið

sitt og hafa gert ýmsar breytingar á lifnaðarháttum sínum til samræmis við það. Vistspor einstaklinga skiptist í sex flokka; húsnæði, ferðir, mat, vörur, þjónustu og sorp. Í heimildarmyndinni kom fram að erfitt sé að lifa sjálfbæru lífi í samfélagi sem styður ekki við þann lífsmáta. „Þess vegna er mjög mikilvægt að allir íslendingar taki höndum saman og ákveði hvers konar samfélagi við viljum búa í. Í raun snýst þetta ekki um einstaka persónur heldur um samtakamátt þjóðarinnar,“ segir Magnús. Nánar má fræðast um stofnunina á Facebook-síðunni Sjálfbært Ísland.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.


1Ís0len0sk%t

4stk 80 g

ungnautakjöt

579 kr. 2x140 g

598 kr. 4x80 g

549

1.698 kr. kg

1.298 kr. kg

Kjarnafæði Lambasirloinsneiðar Kryddlegnar, ferskar

Bónus Grísakótilettur Með beini, kryddaðar

kr. 2x120 g

Íslandsnaut Ungnautaborgarar 2x140 g, 2x120 g eða 4x80 g

GOTT VERÐ Í BÓNUS

2.598 kr. kg

1.998 kr. kg

2.998 kr. kg

3.898 kr. kg

Íslandslamb Lærissneiðar Kryddlegnar, 1.flokkur, ferskar

Íslandslamb Lærissneiðar Kryddlegnar, blandaðar, ferskar

Íslandslamb Lambaprime Ferskt

Íslandslamb Lambafillet Ferskt

3.598 kr. kg

KS Lambafillet Frosið

129 kr. 240 g

129

Euro Shopper Tekex 240 g

Euro Shopper Kex Digestive, 400 g

kr. 400 g

1kg

2.598 kr. kg

2L

Íslandslamb Kótilettur Kryddlegnar, ferskar

98

179 kr. 450 g

kr. 145 g

Euro Shopper Sulta 450 g, 2 teg.

Maryland Kex 145 g, 4 tegundir

998 kr. 1 kg

179

Gevalia Kaffibaunir 1 kg, 2 teg.

Egils Kristall Mexican-Lime, 2 l

kr. 2 l

Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 22. maí eða meðan birgðir endast


8

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 19. maí 2016

FJÖLMENNI Í

ALDARAFMÆLI

ÞÓRHALLS

Laugardaginn 14. maí 2016 voru hundrað ár liðin frá fæðingu Þórhalls Gíslasonar skipstjóra frá Syðstakoti, Sandgerði. Af því tilefni efndu ættingjar hans til samsætis honum til heiðurs í Vörðunni Sandgerði. Reynir Sveinsson tók meðfylgjandi myndir í veislunni

Þórhallur Gíslason og ættingar.

Einar og Lóurnar.

MND fundur

Þórhallur og Jóhann Guðbrandsson skipstjóri.

Ólafur Þór forseti bæjastjórnar flutti ávarp og færði Þórhalli blóm í tilefni dagsins.

Ólafur Gunnlaugsson, Sveinn Pálson.

Sigurður Árnason og Hafsteinn Guðnason.

Næsti fundur er fimmtudaginn 19. maí 2016 í Reykjanesbæ, í Hljómahöllinni. Hefst með léttum veitingum kl. 12:30 og fræðslan um MND félagið og þjónustuna á svæðinu stendur til 16:00. Eigum gott spjall saman. Vona að allir áhugasamir komi og verði með okkur þennan dagpart. Spjöllum um allt og ekkert. Mætum öll hress og kát. Við erum alltaf við símann.

Fjölmargir stutt við líknandi meðferð á HSS í gegnum árin

FINNUM LÆKNINGU VIÐ

MND www.mnd.is

AÐALFUNDUR Norræna félagsins í Reykjanesbæ

verður haldinn miðvikudaginn 25. maí kl. 20:00 í sal á jarðhæð Aðalgötu 1. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin

GARÐAÚÐUN Úðum gegn: Roðamaur, kóngulóm og fl. Björn og Elín, 822 3577 · 699 5571 · 421 5571

Lúxussnekkja

milljarðamærings í Keflavík Lúxussnekkja rússneska milljarðamæringsins Andrey Melnichencko kom við í Keflavík síðastliðinn mánudag. Fley hans minnir meira á kafbát en lúxussnekkju og kostaði smíði hennar um 36 milljarða króna. Í snekkjunni sem ber nafnið „A“ er meðal annars sprengjuhelt gler, þrjár sundlaugar, þrír hraðbátar en tvær 11 þúsund hestafla vélar knýja hana áfram. Til samanburðar eru aðalvélar í nýjasta varðskipi Íslendinga, Þór, 6 þúsund hestöfl hvor.

Hönnuðir snekkjunnar eru Philippe Starck og Martin Francis. Starck hefur hannað allt frá mótorhjólum til hótela. Má þar nefna Sanderson hótelið í Lundúnum. Heimsókn snekkunnar til Keflavíkur vakti athygli og voru margir bæjarbúar sem stoppuðu í Keflavíkurhöfn og smelltu myndum, meðal annars þegar einn þriggja hraðbáta hennar kom í land. Um borð var rússneski milljarðamæringurinn sem fór rakleiðis í einkaþotu sína sem beið á Keflavíkurflugvelli.

Til að koma í veg fyrir misskilning þá viljum við koma á framfæri athugasemd vegna fréttar um opnun líknandi aðstöðu á sjúkradeild HSS þann 5. apríl síðastliðinn. Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hefur í gegnum tíðina notið góðs af starfi styrktar- og félagasamtaka á Suðurnesjum. Það hefur alla tíð nýst starfseminni afar vel. Fyrir nokkrum árum var áætlað að opna líknardeild sem átti að vera staðsett í elsta hluta spítalans. Þessi deild átti að vera hluti að starfsemi heimahjúkrunar. Styrktarfélag Keflavíkurkirkju, Lionessuklúbbur Keflavíkur, Lionsklúbbur Keflavíkur, Krabbameinsfélag Suðurnesja, Styrktarfélag sjúkrahússins, Minningasjóður Vilhjálms Ketilssonar ásamt fleiri félagasamtökum sem óskuðu nafnleyndar, gáfu fjármuni til starfseminnar. Því miður vegna fjárhagsaðstæðna þurftum við að hætta við að útbúa þessa deild og í kjölfarið var ákveðið að sameina þennan hluta við sjúkradeildina (D-deild ). En fjármunum sem áðurnefnd félög gáfu var varið í kaup á tveim rafknúnum legurúmum, dýnum, gálga, tveim náttborðum, húsgögnum í setustofu og gardínum og sóltjöld og fleira. Þessi húsbúnaður er og hefur verið í notkun og líknandi meðferð hefur verið í boði mörg undanfarin ár á deildinni. Búnaðurinn sem var keyptur hefur því komið að mjög góðum notum. Fyrir það viljum við þakka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.


SLÁ Í GEGN!

Lágt verð alla daga

HELGARTILBOÐ SLÁTTUORF, rafmagnsvél, 300W

síðan 1962

SLÁTTUORF, rafmagnsvél, 400W

4.495

kr.

SLÁTTUVÉL, rafmagnsvél 1000W, sláttubreidd 30cm

14.995

kr.

74830020

GOTT VERÐ! SLÁTTUVÉL, rafmagnsvél 1200W, sláttubreidd 32cm

19.995

kr.

74891130

Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/ eða myndabrengl. Tilboð gilda til 23. maí.

SLÁTTUORF, fjórgengisvél, 0,7kW

22.995

kr.

53323120 - Alm. verð: 29.995kr.

HELGARTILBOÐ SLÁTTUVÉL, bensínvél 2,3kW, sláttubreidd 46cm

26.995

kr.

53323130 - Alm.verð: 34.995kr

24.995

kr.

kr.

53322848

SLÁTTUVÉL, bensínvél með

drifi, 2,6kW, sláttubreidd 51cm

49.995

kr.

53322834

GOTT VERÐ!

kr.

GOTT VERÐ! SLÁTTUVÉL, rafmagnsvél 1200W, sláttubreidd 32cm

19.995

kr.

SLÁTTUVÉL, bensínvél 1,6kW, sláttubreidd 46cm

49.995

26.995

kr.

74830073

HELGARTILBOÐ

kr.

53322805 - Alm.verð: 59.995kr

54909811

ÞÝSK GÆÐI! SLÁTTUVÉL, rafmagnsvél 1700W, sláttubreidd 42cm

39.995

kr.

54904076

SLÁTTUORF, fjórgengisvél, 0,75kW

59.995

21.995

kr.

74830013 - Alm. verð: 8.995kr.

GOTT VERÐ!

SLÁTTUORF, tvígengisvél, 0,8kW

22.995

6.995

54904073

BETRI!

SLÁTTUORF, tvígengisvél, 0,6kW

53323140

SVIFSLÁTTUVÉL, rafmagnsvél 1150W, sláttubreidd 33cm

53323051

GÓÐ!

HELGARTILBOÐ

ÞESSI SVÍFUR!

GOTT VERÐ! SLÁTTUORF, rafmagnsvél, 650W

kr.

74830011 - Alm. verð: 5.995kr.

GOTT VERÐ!

HELGARTILBOÐ

GOTT VERÐ! SLÁTTUORF, fjórgengisvél, 1,0kW

29.995

kr.

74830077

HELGARTILBOÐ

4X4

SLÁTTUVÉL, bensínvél með

SLÁTTUVÉL, bensínvél, 4x4, 2,4kW, sláttubreidd 56cm

drifi, 2,3kW, sláttubreidd 51cm

89.995

kr.

53322822 - Alm. verð: 99.995kr.

119.995

kr.

53322842

VIÐ GEFUM EINA SVONA Á FACEBOOK!

skoðaðu úrvalið á www.byko.is AuðvelT að versla á byko.is sendum út um allt land


10

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 19. maí 2016

SUÐURNESIN PARADÍS HJÓLREIÐAFÓLKS

„Besta leiðin er að finna sér hjólafélaga eða einhvern til að hjóla með,“ segir hjólreiðagarpurinn Jón Oddur Guðmundsson, aðspurður um ráðleggingar til fólks sem er að byrja að stunda hjólreiðar. Þær njóta sífellt meiri vinsælda og nú með hækkandi sól eru margir búnir að taka fram hjólin. Jón Oddur hjólar mikið og þjálfar þríþrautarhóp UMFN í hjólreiðum. „Síðan er þetta spurning um að gefa sér tíma til að hjóla. Það er eiginlega nauðsynlegt þegar maður er að koma sér af stað, því að þá er maður að brjóta sig frá þessu daglega munstri og er fljótur að finna afsakanir til að sleppa því að fara út að hjóla, maður þarf að snúa þessu við og finna ástæðu og löngun,“ segir hann. Aðspurður um tæknina við að hjóla segir Jón hana í sjálfu sér svipaða og við lærðum sem börn. Það sem þurfi þó að passa er að vera ekki í of þungum gírum, það sé aðaltæknin. „Að ná um það bil 85 til 95 snúningum með pedalana á mínútu. Þann-

ig þreytist maður seinna og nær að hjóla mun hraðar.“ Jón segir að það að hjóla úti eigi ekki að vera eins og að vera í spinning tíma, þar sem áhersla er mikil á mjög hægt eða mjög hratt. Í hjólreiðum á að vera einhvers staðar þarna á milli.

Margar góðar leiðir á Suðurnesjum

„Suðurnesin eru algjör paradís hjólreiðamanna,“ segir Jón. „Við erum með mjög góðar leiðir, eins og til dæmis hring frá Reykjanesbæ, í Garð og Sandgerði, eða í Hafnir, Ósabotna og Sandgerði. Síðan fyrir þá sem vilja hjóla á möl, þá eru mjög skemmtilegir slóðar á Nickelsvæðinu og út á Fitjum, Hitaveituvegurinn út í Bláa Lónið og gamla Stapaleiðin yfir í Voga.“ Líka er hægt að finna lengri leiðir, eins og á Vatnsleysuströnd eða út á Reykjanesvita og alla leið í Grindavík. Jón segir það eina sem gæti verið að stríða okkur stundum vera hversu oft lognið er að flýta sér. „En þar sem við höfum ekki mikið af brekkum þá getum við

notað vindinn til að líkja eftir þeim aðstæðum.“

Allir þurfa að taka tillit

Hjólreiðamenn velta því stundum fyrir sér hvort þeir eigi að hjóla á götunni eða á gangstéttinni. Jón segir best að hjóla þar sem fólki líður best og er öruggast. „Þá er ég bæði að tala um hjólreiðafólkið og aðra sem á vegi þeirra verða. Við erum með afspyrnu góða göngustíga í öllum bæjarfélögum á svæðinu. Þeir eru hentugir þegar við erum að byrja og við viljum vera nokkuð örugg. Síðan þegar við erum orðin aðeins öruggari með okkur og farin að auka hjólahraða þá mæli ég með því að nota götuna. Það sem skiptir máli, hvort sem við erum á göngustígum, gangstéttum eða götu, er að við megum ekki eigna okkur það svæði sem við erum á. Við þurfum að taka tillit til þeirra sem eru í kringum okkur, bæði gangandi og akandi vegfarenda, en um leið gerum við þá kröfu að þau taki tillit til okkar, án þess að vera með frekju og yfirgang.“

HJÓLA-GRÆJURNAR

Hjálmur

Hjólabúnaðurinn er persónubundinn en við fengum nokkur góð hjá Jóni Oddi um það helsta. Sýnileiki

Mikilvægt er að hjólreiðafólk sé sýnilegt. Það er ekkert verra en að sjást ekki í umferðinni. Gott er að vera í góðum, sýnilegum jakka sem þolir vind og bleytu.

Tónlist

Jón mælir sterklega á móti því að vera með heyrnartól í eyrunum þegar hjólað er. „Við viljum vera með öll skilningarvitin meðvituð um hvað er að gerast í kringum okkur, þar sem aðalmarkmiðið er jú að komast heilu á höldnu heim aftur.“

Það skiptir höfuðmáli að nota hjálm og að hann sé viðurkenndur og í réttri stærð og yngri en þriggja ára. Hjálmar eru úr frauðplasti og úteldast á þremur árum og því er mjög gott að endurnýja þá á þeim fresti.

Hjólið

Mikilvægt er að vera á góðu hjóli í réttri stærð.

Græjur fyrir lengra komna

Hjólreiðar eru víða um heim mikið græjusport og því auðvelt að bæta við alls konar búnaði, í öllum verðflokkum. Lúxusbúnaður eins og smelluhjólaskór, púðabuxur og GPS mælar koma oft fljótlega ef fólk finnur sig vel í hjólreiðamennskunni.

Bjalla

Það er bráðnauðsynlegt að vera með litla bjöllu.

Sprenging í hjólreiðum á Suðurnesjum ●●Með fullan bílskúr af hjólum Helgi Valdimar Viðarsson Biering segist hafa farið af stað með hjólreiðaverkstæði sitt vegna þess að hann átti í erfiðleikum með að finna stað þar sem hann gæti látið gera við hjólið sitt. „Þar sem að ég er vélvirki þá lét ég það ekkert stoppa mig,“ segir Helgi sem undanfarin fimm ár hefur séð um að gera við reiðhjól fyrir íbúa Suðurnesja. Hann hefur lært ýmislegt á þeim tíma en hann hefur verið ansi lunkinn við reiðhjólin alveg frá því að hann var strákur. „Þá löguðu menn bara sín hjól sjálfir. Það hefur þó verið mikil þróun í þessu síðan frá tímum gömlu DBS og Kalkhoff hjólanna. Maður aðlagar sig að þessari þróun,“ segir Helgi sem hefur ekki ennþá fengið inn til sín hjól sem hann hefur ekki getað lappað upp á.

Hjólamenningin að aukast

Fyrsta sumarið fékk Helgi inn til sín 20 til 30 hjól. „Eftir það varð bara sprenging. Líkt og hefur verið að gerast í ferðamannaiðnaðinum hjá okkur.“ Síðasta sumar var þó frekar dapurt en þá var fremur kalt í verðri. Fyrsta hjólið kom inn til Helga í júní

en í ár komu þau tveimur mánuðum fyrr. Það er því ljóst að hugur er í Suðurnesjafólki. „Hjólamenningin er að aukast sem betur fer,“ segir Helgi.

Berst við rokið á veturna

Sjálfur er Helgi mikill hjólamaður. Hann notar sitt hjól allan ársins hring og skiptir bara yfir á vetrardekkin þegar það á við. Fyrst þegar hann fór að hjóla á veturna fyrir rúmum 15 árum, þá segir hann að fólk hafi gjarnan rekið upp stór augu þegar hann mætti á hjólinu. „Nú erum við nokkur sem erum að hjóla allt árið og ég mæli alveg með því.“ Helgi notar hjólið sem samgöngutæki. Það getur stundum verið bölvað basl. „Þar er helst rokið sem er að trufla okkur hérna á svæðinu. Það er þá mikilvægt að vera á góðu hjóli sem er í góðu standi og vel stillt fyrir viðkomandi. Það hjálpar vel í baráttunni við náttúruöflin.“ Helgi segir að þrátt fyrir að vöxtur sé í hjólreiðum á Suðurnesjum þá megi gera talsvert betur. „Við vorum mjög sein af stað hérna. Við eigum ennþá

langt í land í hjólagöngustígum. Þetta er þó á réttri leið, það má ekki taka það af okkur. Það er töluverð aukning á hjólum í bænum.“ Helgi hefur orðið var við töluvert meira af vönduðum og dýrum hjólum og þá einnig hjólum sem fólk er að kaupa erlendis frá.

Viku biðlisti eftir viðgerð

Verkstæði Helga er hlaðið hjólum um allar trissur. Nú er hann búinn að sprengja utan af sér og leitar að stærra húsnæði. Þegar hafa komið inn rúmlega 50 hjól og sér Helgi fram á annríkt

sumar. Eins og staðan er núna er viku biðlisti hjá Helga og því er um að gera að drífa sig að draga hjólið fram úr skúrnum. Viðgerðarmaðurinn lumar á góðum ráðum til þess að halda hjólunum góðum og virkum. „Ég ráðlegg fólki að smyrja reglulega keðjurnar sínar með góðri keðjufeiti. Þar á ég gott leyndarmál. Ég nota keðjufeiti frá Kent chain lube 2. Fólk á ekki að nota WD40 eða koppafeiti. Til þess að halda hjólunum góðum þá er um að gera að þrífa þau.“ Helst á fólk í vandræðum með keðjur, gíra og bremsur.

Sjálfur heldur Helgi upp á gamalt DBS hjól sem hann fann á ruslahaugunum. „Það er framleitt af Fálkanum með leyfi frá DBS. Þannig að þetta er íslensk framleiðsla og mjög vandað.“

Nú erum við nokkur sem erum að hjóla allt árið og ég mæli alveg með því.


fimmtudagur 19. maí 2016

11

VÍKURFRÉTTIR

EKKI HERÐA STÝRIÐ OF FAST ●●Opnuðu reiðhjólaverkstæði í Grindavík

„Maður sér mikla þvílíka vakningu í hjólreiðum núna,“ segir Kjartan Sigurðsson hjá Reykjanes Bike reiðhjólaviðgerðum í Grindavík en fyrirtækið opnaði á dögunum reiðhjólaverkstæði. Áður hafði fyrirtækið boðið upp á hjólreiðaferðir í nágrenni Grindavíkur fyrir innlenda og erlenda ferðamenn. „Við eiginlega duttum inn í þetta. Þegar við vorum að selja frá okkur notuð hjól úr ferðaþjónustunni voru þau gríðarlega eftirsótt, við seldum 13 gömul hjól á tveimur dögum,“ segir Kjartan. Hjá Reykjanes Bike Tours er einnig verið að selja ný hjól og aðra varahluti fyrir reiðhjól og koma viðskiptavinirnir af öllum Suðurnesjum. Þá er líka hægt að skipta vel með förnum notuðum hjólum upp í ný og hefur það verið mjög vinsælt. Kjartan segir allar tegundir reiðhjóla vera vinsælar um þessar mundir. „Torfæruhjólin eru vinsæl. Við erum með „full suspension“ sem eru með fjöðrun bæði að framan og aftan. Þau eru í dýrari kantinum og kostar það ódýrasta 340.000 krónur.“ Þá virðist ekkert lát vera á vinsældum racer-hjólanna enda óhemjuvinsælt að taka þátt í reiðhjólakeppnum.

Mikilvægt að geyma hjólið inni

Kjartan segir mjög mikilvægt að fólk geymi hjólin sín inni við, eigi þau að endast vel og lengi. „Það sem fer verst með hjólin er að geyma þau úti. Við erum með seltuna hér allt um kring og vegna hennar ryðga hjól. Hún fer inn

Strava appið Feðgarnir Sigurður Óli Hilmarsson og Jakob Sigurðsson.

í legur og þær skemmast, sömuleiðis keðjan og annað.“

fremra tannhjólinu þegar verið er að fara í gegnum keðjuna.

Þrífa keðjuna áður en smurt er

Laus stýri á barnahjólum

Mikilvægt er að smyrja hjólin reglulega og segir Kjartan mikilvægt að þrífa keðju og tannhjól áður en það er gert. „Það er líka mjög mikilvægt að passa að sprey fari ekki á diska og annað. Ef þú ert með diskabremsur og feitin fer á, þá fer að ískra í hjólinu og það fer að bremsa illa. Það er því mjög gott að breiða eitthvað yfir diskana og spreyja í þannig átt að ekki fari á þá.“ Þá segir Kjartan gott að spreyja nær

Kjartan segir algengt að foreldrar herði stýrin á hjólum barna sinna of fast og skemmi þannig leguna í stýrinu. „Það eru nokkur dæmi um það að þegar stýrin losna þá taka pabbarnir fram sexkantinn sinn og herða í botn. Þarna inni er lega og hún skemmist á endanum af þessu. Það á bara að herða lítið þarna, fólk trúir því varla hvað þetta er lítil hersla. Það á að herða flest þéttingsfast en ekki stýrið.“

er ansi hentungt app til þess að nota í hjólreiðum. Appið heldur utan um hjólaleiðina þína með hjálp GPS staðsetninga og er hægt að deila leiðinni með vinum og vandamönnum á samfélagsmiðlum. Með appinu er meðal annars hægt að halda utan um allar upplýsingar sem tengjast hjólabúnaðinum og appið getur látið þig vita þegar hjólið þarfnast viðhalds. Hægt er að búa sér til sérstakar leiðir sem þú notast við og appið mælir hversu mikið þú ert að bæta þig á þessum leiðum. Aðrir geta einnig notast við þínar leiðir og þá er þetta orðið að alvöru keppni, ef áhugi er fyrir því.

Runkeeper appið er hentugt fyrir hjólreiðafólk og einnig fyrir fólk sem stundar blandaða hreyfinu, er að hjóla, hlaupa og ganga á fjöll. Appið mælir vegalengd og hvort og þá upp hve háar brekkur er hjólað. Hægt er sjá hraða á leiðum kílómetra fyrir kílómetra og bera saman æfingar og magn kílómetra eftir vikum og mánuðum. Hægt er að láta appið telja hversu margar æfingarnar eru í viku og ef fólk er með markmið eins og til dæmis að hjóla, hlaupa eða ganga þrisvar sinnum í viku er auðvelt að halda utan um dugnaðinn í Runkeeper. Svo er hægt að taka mynd af sér og deila og monta sig aðeins á samfélagsmiðlunum. Eða bara eiga fyrir sig.

BALL Í STAPA 21. MAÍ 2016

ÚLFUR ÚLFUR EMMSJÉ GAUTI STURLA ATLAS VERKFALL HITAR UPP SÉRSTAKT FORSÖLUVERÐ: 2.500 KR. ALMENNT MIÐAVERÐ: 3.000 KR. HÚSIÐ OPNAR 00:00 18 ÁRA ALDURSTAKMARK

MIÐASALA Á HLJOMAHOLL.IS


Frumsýnum Tivoli!

SUMARSÝNING Í R Frumsýningar – Grill - Reynsluakstur Bílabúð Benna fagnar sumarkomunni og heldur glæsilega bílasýningu, laugardaginn 21. maí. Öllu verður til tjaldað; frumsýningar, veitingar og reynsluakstur. Úrval bíla verða til sýnis, meðal annars munum við frumsýna splúnkunýjan fjórhjóladrifinn sportjeppa, Tivoli, frá SsangYong sem og Bíl ársins í Evrópu, Opel Astra, í stórglæsilegri stationútgáfu. Einnig verða á svæðinu verðlaunagripir frá Porsche; hinn óviðjafnanlegi Porsche Cayenne og þrælmagnaði sportjeppinn Macan.


Frumsýning!

Opel Astra Sports Tourer

Porsche Macan

SsangYong Tivoli

Porsche Cayenne

Í REYKJANESBÆ GRILLA

Grillaðar pylsur, Prince og gos á línuna.

U LS PY ÐAR

PE PS IO

R,

Komdu á Njarðarbraut 9, laugardaginn 21. maí, milli kl. 12:00 og 16:00 og fagnaðu sumrinu með okkur.

Kíktu í heimsókn á benni.is. Verið velkomin í reynsluakstur. Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330

Opnunartímar Virka daga frá 9:00 til 18:00 Laugardaga frá 12:00 til 16:00

GP RIN CE POLO Í BOÐI


14

VÍKURFRÉTTIR

Diamond Suites var formlega opnað á þriðjudag á 30 ára afmæli Hótels Keflavíkur. Á myndinni má sjá Davíð Jónsson, aðstoðarhótelstjóra og Steinþór Jónsson, hótelstjóra klippa á borða í tilefni af opnuninni. Við hlið Davíðs er eiginkona hans, Eva Dögg Sigurðardóttir, þá Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, við hlið hennar er Hildur Sigurðardóttur, eiginkona Steinþórs hótelstjóra. VF-mynd/dagnyhulda

Fyrsta fimm stjarna hótelið á Íslandi formlega opnað Þrjátíu ára afmæli Hótels Keflavíkur var fagnað á þriðjudag. Af því tilefni var Diamond Suites formlega opnað en það er á efstu hæð hótelsins og er fyrsta fimm stjarna hótelið á Íslandi. Á hótelinu eru fimm svítur og stofa. Gestir geta leigt eina og eina svítu eða alla hæðina sem er 280 fermetrar. Að sögn Steinþórs Jónssonar, eiganda og hótelstjóra á Hótel Keflavík, hefur vantað slíka lúxusgistingu hér á landi. „Hingað til okkar hafa komið lúxusgestir eins og Meat Loaf, hljómsveitin Herman´s Hermits og Beyoncé og Jay Z. Við erum því aðeins búin að fá smjörþefinn af því að vera með frægt fólk og fólk sem vill lúxus. Við þurfum að auka þjónustu við þennan hóp. Það er mikilvægt til framtíðar fyrir íslenska ferðaþjónustu,“ segir hann. Lögð er áhersla á persónulega þjónustu við gesti Diamond Suites og daglega er reiddur fram morgunverður eftir

óskum hvers gests. Þá fylgir Range Rover með einkabílstjóra og möguleiki á einkakokki og einkaþjálfara. Framkvæmdir við svíturnar hafa staðið í um eitt og hálft ár og er hvert rými sérhannað. Þegar Hótel Keflavíkur var opnað voru fá hótel hér á landi, fjöldi ferðamanna aðeins brotabrot af því sem hann er í dag og Bláa lónið ekki komið til sögunnar. Fyrstu gestir hótelsins þegar það var opnað árið 1986 voru sjóstangaveiðimenn og segir Steinþór þann dag hafa farið að mestu í drulluvinnu þar sem þeir geymdu aflann sinn undir rúmum. Hótelið hefur verið rekið af sömu fjölskyldunni frá upphafi. Meðfylgjandi myndir voru teknar á þriðjudag í opnunarhófi Diamond Suites.

Hildur Sigurðardóttir og Guðlaug Helga Jónsdóttir.

Pípulagningamennirnir Birgir Ingibergsson og Lúðvík Gunnarsson létu fara vel um sig í stofunni á Diamond Suites.

fimmtudagur 19. maí 2016


TIL HAMINGJU

MEÐ FYRSTA FIMM STJÖRNU HÓTEL ÍSLANDS DIAMOND SUITES VIÐ ERUM STOLT AÐ HAFA FENGIÐ AÐ TAKA ÞÁTT Í ÞESSU METNAÐARFULLA VERKEFNI OG ÓSKUM EIGENDUM, STARFSFÓLKI OG BÆJARBÚUM ÖLLUM TIL HAMINGJU MEÐ ÞENNAN STÓRA ÁFANGA.


16

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 19. maí 2016

Viðreisn hélt kynningarfund í Reykjanesbæ Stjórnmálaaflið Viðreisn hélt kynningarfund í Reykjanesbæ laugardaginn 16. Apríl. Viðreisn er nýtt stjórnmálaafl sem verið hefur í undirbúningi í rúm tvö ár. Það er þó óstofnað, en búast má við því að stofnfundur verði haldinn síðustu vikuna í maí, en á næstunni munu nánari upplýsingar koma fram, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsvarsmönnum Viðreisnar. Aflið kynnir sig sem frjálslynt og nútímalegt og mun bjóða fram í öllum kjördæmum landsins í næstu Alþingiskosningum. Markmið aflsins er að berjast fyrir frelsi, jafnrétti, réttlátu samfélagi, vestrænni samvinnu, stöðugu efnahagslífi og fjölbreyttum tækifærum. Rauði þráðurinn í þeirri stefnu er sagður vera sá að almannahagsmunir skulu teknir fram yfir sérhagsmuni. „Best væri að lýsa þessu sem fersku og nýju umbótaafli. Það er ófrávíkjanleg krafa almennings að almannahagsmunir skulu ráða för í stefnumótun og skipulagningu samfélagsins. Ráðamenn virðast þó ekki átta sig á þessu og því er ljóst að breytinga er þörf,“ sagði Bjarni Halldór Janusson, einn stofnenda Viðreisnar, aðspurður um stefnu flokksins. Hann bætti svo við að nauðsynlegt væri að virkja ungt fólk hvað stjórnmálin varðar, enda eðlilegt

Fjölbrautaskóli Suðurnesja í 2. sæti í vali á stofnun ársins

að raddir allra hópa fái að heyrast og ekki síst raddir unga fólksins. „Íslenskt samfélag þarf á ákveðnum ferskleika að halda. Finna þarf meðalhófið á milli fagmennsku og fersk-

leika, svo samfélagið sé opið fyrir breytingum og nýjum tíðaranda, en hafi einnig fagmennsku að leiðarljósi,“ sagði Bjarni. Að lokum hvatti hann alla áhugasama til að finna Viðreisn á Facebook og fylgjast með þar.

ÁRA 1956 - 2016

Húsasmiðjan fagnar 60 ára afmæli

Fjölbrautaskóli Suðurnesja varð í 2. sæti í vali á stofnun ársins en skólinn varð annar í fyrra í sömu könnun sem er ein sú stærsta á landinu og unnin í samstarfi við VR, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Fjármála- og efnahagsráðuneytið. Valið er byggt á svörum tæplega 8 þús. starfsmanna hjá ríki og sjálfseignastofnunum sem starfa hjá 142 stofnunum. Skólinn hlaut einnig nafnbótina Fyrirmyndarstofnun og er ein þrettán ríkisstofnana sem fær þann titil. Þetta er þriðja árið í röð sem FS hljótum heitið Fyrirmyndarstofnun

afsláttur

ÖLL GARÐHÚSGÖGN

Sjómannadagshelgin í Reykjanesbæ SÚPER AFMÆLISTILBOÐ

SÚPER AFMÆLISTILBOÐ

6.320 9.990 kr

7.900 kr Garðstóll Kingsbury

12.900 kr

kr

Garðstóll Kingsbury

Saman-brjótanlegur.

Með stillanlegum örmum.

3899087

3899088

ÞÚ SPARAR: 10.000 kr

ÞÚ SPARAR: 22.910 kr

49.990

76.990

Royal 320

Gasgrill

59.990 kr

kr

99.900 kr

3 ryðfríir brennarar, grillflötur: 38x67 cm.

kr

Weber Q3200, grillflötur: 63 x 45 cm.

3000604

3000380

Á laugardeginum klukkan 14:00 verða opnaðar sumarsýningar safnanna í Duus Safnahúsum og allir velkomnir og ókeypis aðgangur. Á sunnudeginum hefur sjómannamessa verið haldin árum saman í Bíósal Duus Safnahúsa í samstarfi við prestana í Keflavík og Njarðvík til skiptis og nú verður það Njarðvíkursóknin sem sér um messuna klukkan 11:00.

17. júní í Reykjanesbæ

15% afsláttur

SÚPER AFMÆLISTILBOÐ

38.245

kr

44.995 kr

FRÁBÆRT VERÐ

14.495

kr

Sláttuvél TEXAS Razor 4610

Rafmagnsláttuvél Texas

5085301

5085113

139 cc, sláttubreidd 46 cm, sláttukerfi 3in1, 6 hæðastillingar.

1100W, sláttubreidd 32 cm, 6 hæða stillingar.

Byggjum á betra verði

w w w. h u s a . i s

Þrír starfsmenn FS við afhendinguna, f.v. Guðlaug Pálsdóttir, aðstoðarskólameistari, Kristján Ásmundsson og Jón Þorgilsson, umsjónamaður fasteigna.

Sjómannadagur, þjóðhátíðardagur og Ljósanótt með hefðbundnu sniði Menningarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt drög að dagskrá sveitarfélagsins fyrir nokkra hátíðisdaga sem eru framundan, það er sjómannadaginn, þjóðhátíðardaginn og Ljósanótt 2016. Sjómannadagshelgin í Reykjanesbæ verður með svipuðu sniði og undanfarin ár og það sama má segja um dagskrá 17. júní í Reykjanesbæ. Þá leggur menningarráð til að umsjón og framkvæmd Ljósanætur verði á svipuðum nótum og í fyrra um leið og nýjar hugmyndir frá íbúafundi í vetur verði hafðar í huga.

20%

Í könnuninni sem var gerð í ellefta skipti eru mældir þættir á borð við ánægju og stolt, starfsanda, trúverðugleika stjórnenda, launakjör, sjálfstæði í starfi, vinnuskilyrði, sveigjanleika vinnu, ímynd stofnunar og nú í fyrsta sinn jafnrétti. Starfsmenn svara ítarlegri könnun um alla þessa þætti og er val á Stofnun ársins byggt á þeim svörum.

Ráðið samþykkti drög að dagskrá 17. júní hátíðarhaldanna. Ákveðið var að hafa sama lag á skemmtuninni í skrúðgarðinum og í fyrra það er að eftir hefðbundna hátíðardagskrá í skrúðgarðinum í Keflavík tæki við fjölbreytt fjölskylduskemmtun þar sem lögð yrði áhersla á virkni og fjör og um kvöldið verður unglingaskemmtun í 88 húsinu. Hvetur ráðið félagasamtök í bænum til þátttöku í framkvæmdinni. Nöfn fánahyllis, fjallkonu og ræðumanns verður gefið upp síðar eins og vani er.

Ljósanótt 2016

Ráðið leggur til að umsjón og framkvæmd Ljósanætur verði á svipuðum nótum og í fyrra um leið og nýjar hugmyndir frá íbúfundi í vetur verði hafðar í huga. Ljóst er að hátíðin færist sífellt meira í þá átt að verða svokölluð „þátttökuhátíð“ og skipar framlag bæjarbúa sífellt stærra hlutverk. Ráðið lýsir ánægju sinni með þá þróun og hvetur fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að setja mark sitt á hátíðina, hver með sínum hætti. Sumir leggja til viðburði og vinnu á meðan aðrir leggja til fjármagn og saman gera bæjarbúar þetta að flottustu fjölskyldu- og menningarhátíð landsins. Ráðið vekur athygli á að nokkrir viðburðir eru orðnir fastir og mega ekki missa sín: Fimmtudagur: Setning hátíðarinnar með öllum nemendum bæjarins við Myllubakkaskóla. Sölutjöldin sett upp, og kvöldopnanir verslana. Opnanir myndlistarsýninga í Duus Safnahúsum og á fleiri stöðum. Föstudagur: Kjötsúpan og létt dagskrá á hátíðarsvæði. Tónleikar á vegum íbúanna víða um bæinn, heimahús og veitingahús. Laugardagur: Árgangagangan Útiskemmtun á Bakkalág Stórtónleikar á útisviði á Bakkalág. Sunnudagur: Tónleikar og sýningar víða um bæinn.


ÓSKUM FYRSTA 5 STJÖRNU HÓTELI LANDSINS TIL HAMINGJU MEÐ ÁFANGANN

Blikksmiðja Davíðs slf


18

VÍKURFRÉTTIR

Barnadagskráin í öndvegi á 20 ára afmæli Sjóarans síkáta „Bæjarhátíð okkar Grindvíkinga, Sjóarinn síkáti, fagnar 20 ára afmæli í ár. Þá vill svo skemmtilega til að Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur heldur upp á 60 ára afmæli í ár þannig að það er tvöföld ástæða til að hafa halda upp á Sjómannadagshelgina í Grindavík með pompi og pragt í ár,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs en Sjóarinn síkáti fer fram helgina 3. til 5. júní næstkomandi. Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í ársbyrjun og verður mikið lagt í hátíðina í ár. Að sögn Þorsteins verður hún í öndvegi en búið er ráða Villa og Góa, Gunna og Felix, Einar Mikael, íþróttaálfinn, Sollu stirðu, Sigga sæta, Gogga Mega, Sirkus Ísland, Pílu pínu, Brúðubílinn og fleiri. Þá verða leiktæki og hoppukastalar alla helgina, paintball og lazertag, vatnaboltar, gokart, dorgveiðikeppni, skemmtisigling, sjópulsa í höfninni, krakkakeyrsla á mótorhjólum og andlitsmálning, svo eitthvað sé nefnt. „Einnig verðum við með fiskasafn með lifandi sjávardýrum í fiskabúrum

á bryggjunni á sunnudeginum en þetta er samstarfsverkefni Sjóarans síkáta, Hafró í Grindavík og sjávarúvegsfyrirtækjana í Grindavík. Við gerðum þetta í fyrsta skipti í fyrra og það sló algjörlega í gegnum. Við bætum við í ár. Einnig hafa frystitogarar Þorbjarnar safnað saman ýmsum furðufiskum og verða þeir til sýnis fyrir gesti og gangandi. Við erum með sullubúr fyrir krakkana þar sem þau geta komist í tæri við krabba, skeljar og minni fisktegundir,“ segir Þorsteinn. Óhætt er að segja að landslið skemmtikrafta verði á Sjóaranum síkáta í ár. Á meðal þeirra sem búið er að bóka á Sjóarann síkáta er Páll Óskar sem kemur fram bæði á Bryggjuballi og verður með Palla-ball í íþróttahúsinu. Bræðurnir Jón og Friðrik Dór Jónssynir munu skemmta saman ásamt hljómsveit á bryggjupallinum ásamt heimamanninum Ellert Heiðari Jóhannssyni sem sló í gegn í The Voice og treður upp ásamt hljómsveit sinni.

Ingó Veðurguð sér um brekkusöng eins og honum einum er lagið. Þá mun hópur tónlistarfólks í Grindavík standa fyrir klassískri rokkhátíð í íþróttahúsinu. Alls koma fram 15 flytjendur, sem flestir búa í, hafa búið í eða tengjast Grindavík á einhvern hátt. Þetta fólk kemur úr ólíkum áttum en á það sameiginlegt að njóta þess að flytja frábæra tónlist. Hópurinn ætlar að flytja framsækið rokk (e. Progressive Rock), sem átti sitt blómaskeið á áttunda áratugnum. Flutt verða lög eftir hljómsveitir á borð við Pink Floyd, Marillion, Yes og Queen, í bland við nýrra efni.

fimmtudagur 19. maí 2016

Bláa Lónið veitir psoriasissjúklingum meðferð án greiðsluþátttöku Sjúkratryggingar Íslands og Bláa Lónið hf. hafa gert með sér samning sem felur í sér að hér eftir mun Bláa lónið veita íslenskum psoriasissjúklingum meðferð þeim að kostnaðarlausu og án opinberrar greiðsluþátttöku. Heilbrigðisráðherra staðfesti samninginn í vikunni. Bláa Lónið hefur frá árinu 1994 veitt meðferð við psoriasis. Meðferðin er viðurkennd af íslenskum heilbrigðisyfirvöldum sem meðferðarvalkostur og hafa Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greitt meðferðina fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi. Eigendur og stjórnendur Bláa Lónsins hafa nú tekið þá ákvörðun að kosta meðferðina alfarið án opinberrar greiðsluþátttöku eða innheimtu gjalds af sjúklingunum. Í nýjum samningi Bláa Lónsins og Sjúkratrygginga er gert ráð fyrir að minnsta kosti 3000 meðferðarskiptum árlega og er það í samræmi við fyrri samninga. Af hálfu ríkisins hefur tilvísun frá lækni verið forsenda greiðsluþátttöku og verður sami háttur hafður á áfram, það er að sjúkl-

ingar munu þurfa tilvísun frá lækni. Húðlæknar á höfuðborgarsvæðinu veita tilvísanir í meðferðina og heilsugæslulæknar á landsbyggðinni. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra fagnar framlagi Bláa Lónsins til íslenska heilbrigðiskerfisins. Samtals sparar þetta framlag ríkinu um 25 milljónir króna og hefur ráðherra ákveðið að nýta þá fjármuni til að styrkja aðra heilbrigðisþjónustu við psoriasis- og exemsjúklinga. Samráð verður haft við samtök þessara sjúklingahópa um það hvernig fjármununum verður best varið. „Lækningamáttur Bláa Lónsins er ein af grunnstoðunum í starfsemi okkar,“ segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins: „Við höfum fjárfest umtalsvert í að byggja upp góða aðstöðu fyrir psoriasis meðferðir og einnig höfum við fjárfest í mikilvægum rannsóknum. Í ljósi takmarkaðra fjármuna til heilbrigðisþjónustu viljum við leggja okkar lóð á vogarskálarnar við uppbyggingu samfélags okkar og veita meðferðirnar íslensku heilbrigðiskerfi og sjúklingum að kostnaðarlausu.“

Björgunarsveitin Þorbjörn kemur að skipulagningu og gæslu á hátíðinni með öflugum hætti að vanda. Hátíðin hefur vaxið með hverju árinu, þar er fjölbreytt dagskrá alla helgina en mikið er lagt upp úr vandaðri barnadagskrá. Um 25 þúsund gestir voru á hátíðinni í fyrra

ATVINNA

Brunavarnir Suðurnesja högnuðust um 8,4 milljónir

JBB Tréverk ehf. leitar af framtíðarstarfsmanni í fullt starf hjá fyrirtækinu.

Umsóknir sendist á jbbtreverk@jbbtreverk.is

●●Fyrsti ársfundur haldinn í Sandgerði

Góð verkefnastaða framundan Nánari upplýsingar eru veittar í síma 8975836 eftir kl. 16:00.

Keflavíkurflugvöllur fær umhverfisvottun Keflavíkurflugvöllur hefur hlotið vottun frá Alþjóðasamtökun flugvalla (Airports Council International) eftir að hafa lokið fyrsta skrefi í átt til kolefnisvottunar. Frá þessu er greint á vef Isavia. Kolefnisvottunarverkefni samtakanna gengur út á að minnka umhverfisáhrif flugvalla. Verkefnið skiptist í fjögur stig; kortlagningu kolefnisspors, markmiðasetnigu og minnkun kolefnislosunar, minnkun kolefnislosunar í samstarfi við aðra rekstraraðila á flugvellinum. Lokastigið er kolefnisjöfnun flugvallarins. Fyrsta stigið felst í greiningu á umhverfisáhrifum reksturs flugvallarins á nærumhverfið og kortlagningu á kolefnisspori starfseminnar. Þessi vinna

hefur tekið um fimm mánuði en hún er grundvöllur að því að sýna fram á árangur í minnkun kolefnislosunar á hvern farþega í vottunarferlinu. Kolefnisvottun Alþjóðasamtaka flugvalla (ACI Airport Carbon Accredidation) hefur fengið viðurkenningar frá fjölda stofnana, meðal annars frá Rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (UNFCCC), Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP), Alþjóðaflugmálastofnun (ICAO) og Evrópusambandinu. Alls hafa 156 flugvellir um allan heim fengið vottun ACA, en um þá fara 32,6 prósent flugumferðar í heiminum. Keflavíkurflugvöllur er á meðal 106 vottaðra flugvalla í Evrópu.

■■Fyrsti ársfundur Brunavarna Suðurnesja (BS) var haldinn í Sandgerði síðastliðinn fimmtudag. Þar var lagður fram ársreikningur þar sem fram komu upplýsingar um afkomu félagsins, efnahag og breytingu á handbæru fé árið 2015. Á fundinum var farið vandlega yfir aukin umsvif félagsins í takt við aukningu íbúa á svæðinu. Hagnaður ársins nam um 8,4 milljónum króna. Heildareignir námu um 382,7 milljónum og eigið fé var jákvætt um 314,8 milljónir. Reiknuð stöðugildi innan BS voru 26 árið 2015, en alls eru starfsmenn þó 42 talsins. Frá og með 1. janúar 2015 hafa Brunavarnir Suðurnesja verið reknar í formi byggðasamlags þar sem Reykjanesbær á tvo fulltrúa, Sandgerði, Garður og Vogar eiga öll einn fulltrúa. Öll sveitarfélögin á Suðurnesjum utan Grindavíkurbæjar standa að byggðasamlaginu. Á þjónustusvæði BS um síðustu áramót bjuggu 19.383 íbúar, og hefur þeim fjölgað talsvert undanfarin ár. Margvísleg verkefni eru einnig í tengslum við aukinn fjölda ferðamanna sem fara um Flugstöð Leifs Eiríkssonar, ekki síst sjúkraflutningar. BS hafa þegar unnið og fengið samþykkta brunavarnaáætlun fyrir starfssvæðið, sem jafnframt hefur verið samþykkt af Mannvirkjastofnun.


Tæknifræðinám (BS)

Umsóknarfrestur er til 3. júní næstkomandi. Þriggja ára fjölfaglegt og hagnýtt háskólanám í tæknifræði sem fer fram á Suðurnesjunum. Námið heyrir undir Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands og er kennt á vettvangi Keilis. Boðið er upp á sérhæfingu í orkuog umhverfistæknifræði og mekatróník hátæknifræði. Umsóknarfrestur er til 5. júní næstkomandi.

HÁSKÓLI ÍSLANDS RAFMAGNS- OG TÖLVUVERKFRÆÐIDEILD KEILIR // ÁSBRÚ // 578 4000 // www.kit.is


20

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 19. maí 2016

Sölumaður nýrra og notaðra bíla í Reykjanesbæ

Toyota í Reykjanesbæ óskar eftir að ráða sölumann til starfa við sölu á nýjum og notuðum bílum í sumar. Við leitum að einstaklingi með ríka þjónustulund, frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af sölustörfum er kostur. Toyota Reykjanesbæ er sölu- og þjónustuaðili fyrir Toyota. Starfsmenn fyrirtækisins byggja gildi sín og viðmið á The Toyota Way: Stjórnunar- þjónustu- og mannauðsstefnu Toyota. Gagnkvæm virðing og náin samvinna eru hornsteinar í daglegri starfsemi Toyota í Reykjanesbæ. Hverri áskorun er tekið fagnandi og leita starfsmenn stöðugt leiða til að tryggja áframhaldandi framfarir í starfsemi fyrirtækisins og þjónustu gagnvart viðskiptavinum þess.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ævar Ingólfsson í síma 842-6600.

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ og Gunnar Egill Sigurðsson, forstöðumaður verslunarsviðs Samkaupa klippa á borða við opnun verslunarinnar.

Nettó opnar á Iðavöllum í Reykjanesbæ Ný Nettó verslun á Iðavöllum í Reykjanesbæ var opnuð síðasta föstudag. Þar var áður rekin Kaskóverslun. Nettó verslunin er byggð upp í sama stíl og aðrar Nettó verslanir þar sem áhersla er lögð á lágt verð og mikið vöruval auk þess sem meira verður um eigin innflutning Nettó. Verslunin verður opin alla daga frá klukkan 10 til 21. Sett hefur verið upp úðunarkerfi í grænmetistorgi sem viðheldur lengur ferskleika ávaxta og grænmetis auk þess sem boðið verður upp á „Bakað á staðnum“ sem notið hefur mikilla vinsælda í Nettó verslunum, enda lagt upp með mikil gæði, lágt verð og regluleg tilboð. „Með þeim breytingum sem við höfum gert á Iðavöllum komum við til móts við þarfir viðskiptavina sem og aukinn fjölda ferðamanna sem leggja leið sína í Reykjanesbæ,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, forstöðumaður verslunarsviðs Samkaupa. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson, opnaði búðina og í tilefni dagsins undirrituðu forsvarsmenn Samkaupa styrktarsamning við Meistaraflokk kvenna í knattspyrnu í Keflavík, Golfklúbb Suðurnesja og Púttklúbb Suðurnesja.

Samningur við Púttklúbb Suðurnesja undirritaður.

Forsvarsmenn Samkaupa gerðu styrktarsamning við Meistaraflokk kvenna í knattspyrnu í Keflavík.

SMÁAUGLÝSINGAR ÞJÓNUSTA

Vantar vinnuaðstöðu með rafmagni og hita fyrir létta handverksframleiðslu. Stærð 15 - 30 fermetrar. Uppl. í sima 456 2172 / 861 1436 eða sdyri@ simnet.is

Bláa Lónið styrkir íþróttafélögin á Reykjanesi Bláa Lónið afhenti íþróttafélögunum í Grindavík, Reykjanesbæ, Garði,Sandgerði og Vogum styrki til íþróttastarfs barna og unglinga. Styrkirnir voru afhentir í Bláa Lóninu fimmtudaginn 28. apríl. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, sagði við þetta tækifæri að það væri ánægjulegt fyrir Bláa Lónið að styðja við íþróttastarf

barna og unglinga og að félögin ynnu ómetanlegt starf.“ Ingigerður Sæmundsdóttir, formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, sagði að styrkirnir væru mikilvægir fyrir starf félaganna sem væri kostnaðarsamt þrátt fyrir mikla vinnu sem unnin væri af sjálfboðaliðum.

Verið velkomin

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

AFMÆLI

Mamma og amma, Steinunn Beck Guðmundsdóttir, innilega hamingju óskir með 60 ára afmælið Þín börn og barnabörn.

WWW.VF.IS

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

FIMMTUDAGURINN 19. MAÍ KL. 20:00 Vortónleikar Kórs Keflavíkurkirkju í Kirkjulundi. Aðgangseyrir 1000 kr. Heitt á könnunni. Allir velkomnir í góða söngstund SUNNUDAGURINN 22. MAÍ KL. 11:00 Messa í Njarðvíkurkirkju, Innri-Njarðvík, með fjölskylduformi. Saga kirkjunnar rekin, sálmar og sunnudagaskólalög sungin, biblúsaga og bænir. Velkomið að taka nestispakka og snæða upp við kirkjuvegg. FIMMTUDAGURINN 26. MAÍ KL. 20:00 Vortónleikar Eldeyjar, kórs eldri borgara á Suðurnesjum, í Kirkjulundi. Allir velkomnir.


Þekking í þína þágu

Langar þig í nám?

Sérhæft sölu- markaðs og rekstrarnám

Skrifstofuskólinn, alhliða skrifstofunám

• • • • •

• Tölvur • Bókhald • Skrifstofutækni

Markaðsfræði Viðskiptaáætlun Verkefnastjórnun Tölvur Samningatækni

Skilar þér öflugri í störf tengd sölu og rekstri.

Góður undirbúningur fyrir störf í nútíma fyrirtæki.

Hefst í september 2016

Hefst í september 2016

Verð: 84.000 kr.

Minnum á einstaklingsstyrki hjá stéttarfélögunum Ætlað fólki 20 ára eða eldri með stutta formlega skólagöngu að baki.

Skráning í síma 421 7400 eða á mss.is

Verð: 49.000 kr.


22

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 19. maí 2016

ÍÞRÓTTIR

Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is

Eigum alltaf að vera að berjast á toppnum ●●Segir Óli Stefán þjálfari Grindvíkinga sem eru ósigraðir í 1. deild Grindvíkingar hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í 1. deildinni í fótbolta og tróna á toppnum ásamt Leiknismönnum. Þjálfarinn Óli Stefán Flóventsson er að vonum sáttur við gengið og segir stefnuna tekna upp í efstu deild eftir fjögur mögur ár í næst efstu deild. „Það er jákvætt að við séum að byrja mótið sterkar en oft áður,“ segir Óli. Hann segir að þjálfararnir hafi lagt mikla áherslu á grunnatriði eins og form leikmanna á undirbúningstímabilinu. Eins hafi verið reynt að byggja upp stemningu í bæjarfélaginu fyrir fótboltanum og það hafi tekist vel. „Við eigum alltaf að vera að berjast á toppnum í þessari deild. Það er ekki í takti við okkar markmið að gera hlutina öðruvísi,“ segir Óli sem skrifaði niður fimm ára plan í fyrra þar sem stefnan sé sett á að komast upp um deild á næstu tveimur til þremur árum. „Markmiðið er alltaf að gera betur en í fyrra. Við erum á réttri leið,“ segir Grindvíkingurinn sem kom aftur á heimaslóðir í fyrra eftir að hafa þjálfað hjá Sindra á Höfn.

Deildin gríðarlega sterk í ár

Þjálfarinn telur 1. deildina í ár vera gríðar sterka. „Það eru níu lið sem ætla sér upp og hin þrjú ætla að halda

sæti sínu. Þannig að samkeppnin er mjög mikil.“ Samkvæmt spám eiga Keflvíkingar og KA að fara fremur auðvelda leið aftur upp í deild þeirra bestu. „Ég er ekki alveg að sjá að sú verði raunin. Hver leikur verður mjög erfiður.“ Koma heimamannana Gunnars Þorsteinssonar og Alexanders Veigars hefur styrkt lið Grindvíkinga til muna. Óli segir að nú sé sjö til níu manna kjarni af heimamönnum í liðinu og hann segir stutt í góða uppskeru hjá 2. flokki.

■■Í miklum baráttuleik máttu Njarðvíkingar sætta sig við 0-1 gegn ÍR á heimavelli sínum í 2. deild karla í fótbolta. Mark gestanna kom í uppbótartíma eftir að vítaspyrna hafði verið dæmd á Njarðvíkinga. Barátta einkenndi leikinn og var talsvert jafnræði með liðunum. Leikurinn var fyrsti heimaleikur Njarðvíkinga á tímabilinu en þegar höfðu þeir unnið sigur á Hetti á útivelli í fyrsta leik sumarsins.

Grindvíkingar eiga ennþá ás í ermi en þeir fengu brasilískan leikmann til liðsins sem á meðal annars á ferilskránni leiki fyrir öll yngri landslið Brasilíu. Hann kom þó seint til landsins og hefur undanfarið verið unnið að því að koma leikmanninum í leikform. „Þetta er hinn brasilíski Scott Ramsey. Þó svo að það sé erfitt fyrir strákgreyið að standa undir því,“ segir Óli Stefán léttur að lokum.

●●„Ég hef svo sem ekki verið sáttur við mitt hlutskipti“ Allar líkur eru á því að Njarðvíkingurinn Ólafur Helgi Jónsson muni semja við Þór í Þorlákshöfn í Domino’s deildinni í körfubolta á næstu dögum. „Ég stefni að því já. Það mun væntanlega gerast á næstunni. Fyrir sjálfan mig þá tel ég þetta nauðsynlegt,“ sagði Ólafur í samtali við Víkurfréttir nú í hádeginu. Ólafur hefur hugsað málið allt frá því að úrslitakeppni lauk og ráðfært sig við ýmsa aðila. Guðmundur bróðir hans lék með Þórs liðinu á sínum tíma og líkaði vel. „Þetta er engin skyndiákvörðun,“ segir framherjinn. Þar hittir hann fyrir Njarðvíkingana Einar Árna Jóhannsson þjálfara og Maciek Baginski félaga sinn. Ólafur viðurkennir að það skemmi ekki fyrir að þeir séu þarna fyrir en það sé ekki ástæðan fyrir þessum vistaskiptum. Aðspurður um það hvort hann sé ósáttur við hlutskipti sitt hjá Njarðvík segir Ólafur. „Það er allavegana einhver ástæða fyrir því að ég fer. Mér fannst ég bara þurfa breytingu. Ég hef svo sem ekki verið sáttur við mitt hlutskipti. Ég kannski tel líka að ég þurfi að fara eitthvert annað til þess að verða betri leikmaður. Kannski hef ég náð mínu „potential“ hjá Njarðvík,“ segir Ólafur að lokum en hann Ólafur Helgi fetar í fótspor Guðmundar bróður síns og býst við því að ganga frá sínum málum mjög fljótlega. spilar í Þorlákshöfn á næstu leiktíð.

Öruggt í fyrsta heimaleik ■■Kefla­vík vann ör­ugg­an sig­ur á Sel­ fossi, 3-0 í 1. deildinni í knattspyrnu karla um helgina. Magnús Þórir Matth­í as­s on kom heimamönnum í 1-0 þegar stundarfjórðungur var liðinn af leiknum. Sig­ur­berg­ur Elís­ son bætti við marki fyrir Keflavík þremur mínútum síðar og heimamenn fóru með 2-0 forystu inn í leikhlé. Auk þess að skora þá lagði Sigurbergur upp hin mörkin tvö fyrir félaga sína í leiknum. Jón­as Guðni Sæv­ars­son fagnaði heimkomunni og skoraði þriðja mark Kefl­ vík­inga á 59. mín­útu. Jónas er ekki oft á skotskónum en byrjar sannarlega vel. Þetta er fyrsti sigur Keflavíkur á leiktíðinni en Keflvíkingar gerðu jafntefli í fyrstu umferðinni gegn HK.

■■Keflavíkurkonur fóru vel af stað í 1. deild kvenna í fótboltanum þegar þær lögðu Álftnesinga 1-2 á útivelli í fyrstu umferð. Þær keflvísku lentu undir strax á fimmtu mínútu eftir að hafa fengið dæmda á sig vítaspyrnu. Sveindís Jane Jónsdóttir jafnaði fyrir Keflvíkinga áður en flautað var til hálfleiks og aftur var um vítaspyrnu að ræða. Sigurmark Keflvíkinga kom svo á 74. mínútu og það skoraði Kristrún Ýr Hólm. Næsti leikur Keflvíkinga verður á heimavelli gegn Grindvíkingum þann 30. maí.

Grátlegt tap Njarðvíkinga

Eiga brasilískan Scott Ramsey á bekknum

Ólafur Helgi að semja við Þórsara

Jónas Guðni fagnar marki sínu eftir langa fjarveru frá Nettóvelli.

Sigur í fyrsta leik hjá Keflavíkurkonum

Söguleg stund hjá Þrótturum ■■Sögulegur leikur fór fram í sögu Þróttar frá Vogum í vikunni, en þá fór fram fyrsti leikur félagsins í landsdeild. Þróttarar leika nú í fyrsta sinn í 3. deild og þeir tóku á móti Reyni/Dalvík á Vogabæjarvelli í fyrstu umferð deildarinnar. Þar unnu heimamenn öruggan 3-0 sigur. Ragnar Valberg Sigurjónsson gerði tvö mörk fyrir Vogamenn og Halldór Arnar Hilmisson bætti einu við. Þróttarar voru reyndar einum færri síðustu 20 mínútur leiksins, en Alexander Magnússon, sem er í láni hjá liðinu frá Keflavík, fékk þá að líta rauða spjaldið.

Áttræðir Víðsmenn með öruggan sigur í grannaslag ●●0-3 sigur gegn Reynismönnum í fyrsta leik Víðismenn unnu öruggan 0-3 sigur á grönnum sínum 3. deildinni í fótbolta karla um helgina en leikurinn fór fram í Sandgerði. Fyrsta mark Víðis skoraði Milan Tasic rétt áður en flautað var til hálfleiks. Helgi Þór Jónsson bætti við marki fyrir Garðbúa á 77. mínútu og maður leiksins, Róbert Örn Ólafsson, bætti síðasta markinu við í uppbótartíma fyrir Víði. „Þetta var það sem við lögðum upp með, að halda hreinu hjá okkur. Við vorum örlítið hissa á að mótspyrnan hafi ekki verið meiri en raun bar vitni,“ segir Björn Bergmann Vilhjálmsson fyrirliði Víðis. „Afmælisveislan er bara rétt að byrja. Þetta verður svona í allt sumar. Við ætlum að gera mun betur en spár gerðu ráð fyrir,“ bætti fyrirliðinn kokhraustur við. Víðismönnum var spáð fimmta

sæti deildarinnar á meðan Sandgerðingum var spá toppsætinu. „Við gáfum smá fyrirheit fyrir það sem koma skal og minntum á okkur.“

Tók sér kærkomið frí frá boltanum

Björn segir að í Víðisliðinu sé góð blanda af heimamönnum og öðrum sem tengjast samfélaginu á einn eða annan hátt. Eins eru útlendingarnir sem leika með liðinu gríðarlega sterkir að hans mati. Fyrirliðinn hefur verið í fríi í tvö ár frá boltanum, bæði vegna meiðsla og eftir að hann eignaðist tvíbura. „Ég held að þetta hafi verið kærkomið frí og svo vakti þetta upp áhugann aftur. Nú er þetta orðið skemmtilegt aftur eins og þegar maður var á fullu í þessu,“ segir Björn sem er gallharður Víðismaður og á að baki tæpa 170 leiki með liðinu þrátt fyrir að vera rétt 31 árs.

Fyrirliðinn Björn í baráttunni gegn Reynismönnum í fyrsta grannaslag sumarsins.


Fréttir

Mannlíf

Íþróttir

Viðskipti

Aðsent

Vef TV

Ljósmyndavefur

Smáauglýsingar

Kylfingur

VF.IS Í NÝJUM FÖTUM

ÖFLUGASTA FRÉTTAÞJÓNUSTA Á SUÐURNESJUM. NÝJAR FRÉTTIR ALLAN DAGINN, ALLA DAGA!

FYLGSTU MEÐ Í... TÖLVUNNI

SPJALDTÖLVUNNI

SNJALLSÍMANUM

NÝI VEFURINN AÐLAGAR SIG AÐ HVERJU TÆKI FYRIR SIG.

vf.is

Sjónvarpsþáttur VF

er meðal mest sóttu fréttavefja landsins. Að meðaltali eru 10 til 14 nýjar fréttir á hverjum degi. Viðtöl, greinar og VefTV.

er aðgengilegur í frábærum myndgæðum (HD). Sjáðu hann í símanum eða spjaldtölvunni hvenær sem þú vilt en þú getur auðvitað líka horft í tölvunni, á ÍNN og á rás Kapalvæðingarinnar í Reykjanesbæ.


Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

Mundi STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

Velti fjórhjóli og fótbrotnaði ■■Erlend kona slasaðist um hvítasunnuhelgina þegar fjórhjól, sem hún ók eftir malarslóða við borholuna í Eldvörpum á Reykjanesi, valt. Konan var í hópi ferðafólks sem var með leiðsögumann. Lögreglan á Suðurnesjum fór á staðinn og kom þá í ljós að konan virtist hafa misst vald á fjórhjólinu þegar hún var að aka niður aflíðandi brekku. Að sögn virtist hún hafa ekið of utarlega í vegarbrún með þeim afleiðingum að hjólið valt og hún kastaðist af því. Sjúkralið var kallað á vettvang og virtist allt benda til að konan hefði fótbrotnað við óhappið. Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

instagram.com/vikurfrettir

Lavor Space 180 háþrýstidæla

Furukrossviður

9-12-15-18mm þykkur Gæðavara. Gott verð

Lavor One Plus 130 háþrýstidæla

29.990

14.990

180 Max bar 510min Litrar Pallahreinsir, bursti og aukaspíssar.

130 Max bar 420min Litrar Fylgihlutir: Burstar, sápubrúsi & Turbóstútur.

Kailber KG-1503 Gasgrill 3 x 3KW brennarar, grillflötur 2520 cm2, 9KW

Made by Lavor

43.900 Kaliber KG-1301 gasgrill

DOMAX byggingarvinklar. Mikið úrval

3+1 brennarar/hliðarhella grillflötur 2520 cm2, 11,5KW

47.900

Bio Kleen pallahreinsir 1 líter Landora tréolía, 3 lítrar

2.690

Deka Hrað 5 kg

LLA-308 PRO álstigi 3x8 þrep 2,27-5,05 m

15 metra rafmagnssnúra

3.190

18.990

1.890

895 5 lítrar kr. 3.295

ODEN EÐAL OLÍA á palla. Hágæða Silikonalkyd efni. 3 l.

4.390

Weber Milligróf múrblanda 25 kg

DEKA SÍLAN vatnsfæla 5 lítrar

MIKIÐ

6.590

ÚRVA

Truper 10574

1.895

1.890

Hlúaajárn Buf PGH316

1 líter kr.

Weber Rep 980 5kg

1.790

TIGUM L AF S

1.650

1.890

Meister jarðvegsdúkur 9961360 5x1,5 meter

795

OG TR M

ÖPPU

Brutust inn og stálu fimm fötum af golfkúlum ■■Lögreglan á Suðurnesjum hafði síðasta föstudag hendur í hári fimm pilta sem gerst höfðu sekir um innbrot, eignaspjöll og þjófnað. Fjórir þeirra brutust inn í golfskálann í Leirunni, meðan einn var á verði, og stálu þeir þaðan fimm fötum, fullum af golfkúlum. Því næst héldu þeir til Sandgerðis þar sem brutust inn í skúr sem tilheyrir golfskálanum þar og stálu nokkrum golfkylfum og spreybrúsum. Þaðan lá leiðin niður að höfninni í Sandgerði þar sem þeir hófu að slá golfkúlurnar af bryggjunni og út í sjó. Þegar kúlurnar voru uppurnar fleygðu þeir því sem eftir var af þýfinu, kylfunum og spreybrúsunum, í sjóinn.

twitter.com/vikurfrettir

Grill, vorþrif og gaman saman!

Ók á fullri ferð aftan á tjaldvagn við Kúagerði ■■Bifreið var ekið á miklum hraða aftan á tjaldvagn, sem dreginn var af annarri bifreið, á Reykjanesbraut við Kúagerði síðasta föstudag. Ekki urðu meiðsl á ökumönnum sem voru einir í bifreiðum sínum en grunur vaknaði um að sá sem ók aftan á tjaldvagninn væri undir áhrifum vímuefna. Lögreglan á Suðurnesjum færði hann því á lögreglustöð þar sem sýnatökur staðfestu neyslu hans á kannabisefnum, amfetamíni, kókaíni og ópíumblönduðu efni. Fjarlægja varð bæði ökutækin og tjaldvagninn af vettvangi með dráttarbifreið. Þá var annar ökumaður færður á lögreglustöð vegna gruns um fíkniefnaakstur. Sá grunur reyndist á rökum reistur. Hinn þriðji, sem lögregla hafði afskipti af, reyndist vera undir áhrifum áfengis við aksturinn.

Er Steini hótelstjóri bara með stjörnustæla?

Strákústur 30cm breiður

795 Bíla & gluggaþvottakústur, gegn um rennandi 116>180cm, hraðtengi með lokun

2.790

Öflugar hjólbörur, 90 lítra

8.590

Steypugljái á stéttina – þessi sem endist

MIKIÐ ÚRVAL

1.790

Verð frá Truper 24” greinaklippur

995

2.295

25 stk. 110 lítra ruslapokar Einnig 200lítra 10 stk. kr. 795 (65my)

Gróðurmold 40 l

890

Gróðurmold 20 l

490

Trup hekkklippur 23060

1.245

Pretul greinaklippur

875

2.190 2.390

Proflex Nitril vinnuhanskar

395

Blákorn 5 kg

1.290

Reykjavík

Kletthálsi 7

Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16

Reykjanesbær

Fuglavík 18

Opið virka daga kl. 8-18

Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

Neytendur athugið! Múrbúðin selur allar vörur sínar á lágmarksverði fyrir alla, alltaf. Gerið verð- og gæðasamanburð!

VF.IS Í NÝJUM FÖTUM

TÖLVUNNI

FYLGSTU MEÐ Í...

SNJALLSÍMANUM

SPJALDTÖLVUNNI


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
20 tbl 2016 by Víkurfréttir ehf - Issuu