Skip to main content

21 tbl 2015

Page 1

Víkurfréttir

Vikulegur magasínþáttur frá Suðurnesjum - alltaf eitthvað nýtt í hverri viku!

Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær

ÁSBRÚ SKAPAR NÝJA EFTIRSPURN BRÚÐKAUP FÍGARÓS DÚXINN Í FS

Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001

... já, það er alltaf eitthvað í þætti vikunnar!

Sjónvarp Víkurfrétta

nslög yfir 700 in Þú finnur rétta á YouTube Víkurf Sjónvarps

á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30 – og í HD á vf.is þegar þér hentar!

vf.is

F IMMTUDAGUR 2 8. MAÍ 2 0 15 • 2 1. TÖ LUBLA Ð • 36. Á RGA NGU R

Bókin og boltinn hjá stúdínum

Ný matvöruverslun í húsnæði Félagsbíós?

XXÞær Eygló Alexandersdóttir, Guðlaug Björt Júlíusdóttir og Lovísa Falsdóttir eiga það sameiginlegt að hafa útskrifast sem stúdentar frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja á vorönn 2015. Þær eru líka góðar í körfubolta en hafa náð að sameina bókina og boltann. Guðlaug Björt sló meira í segja í gegn því hún var dúx FS að þessu sinni. Meira um útskriftina og viðtal við Guðlaugu inni í blaðinu og einnig í sjónvarpsþætti VF sem frumsýndur er á ÍNN og vf.is í kvöld. Myndina tók Axel Sigurbjörnsson.

XXFyrirspurn barst Umhverfis- og skipulagsráði Reykjanesbæjar á dögunum frá Fasteignasölunni Stakfelli um hvort leyfður yrði rekstur matvöruverslunar í húsnæðinu að Túngötu 1 í Reykjanesbæ. Þar var Félagsbíó rekið um langt skeið og verslanirnar Nóatún og Kostur voru einnig starfræktar þar. Í umsögn í fundargerð þar sem málið var tekið fyrir segir að samkvæmt deiliskipulagi sé um að ræða miðbæjarsvæði og áður hafi verið matvöruverslun í húsnæðinu svo að Umhverfis- og skipulagsráð tekur vel í erindið. Fasteignasalan Stakfell varðist frétta um málið en Víkurfréttir vita þó til þess að fyrir liggur kauptilboð í húseignina hjá Landsbankanum.

Meirihluti skuldara í Reykjanesbæ nýtti sér ekki úrræði vegna fjárhags- eða húsnæðisvanda eftir efnahagshrun:

80% þeirra sem misstu húsnæði sitt leigja núna Erfitt fyrir marga að skilja stöðu sína. Sláandi niðurstöður könnunar velferðarráðuneytisins

Á

FÍTON / SÍA

tta af hverjum tíu fjölskyldum á Suðurnesjum sem misstu húsnæði sitt á nauðungarsölu á árunum 2008-2011 búa nú í leiguhúsnæði. Áberandi er að hátt hlutfall skuldara nýtti sér ekki opinber úrræði sem í boði voru og hefðu getað komið þeim að gagni vegna skorts á upplýsingum um þau. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar velferðarráðuneytisins sem birtar voru á þriðjudag. Í úrtaki voru 335 einstaklingar og fjölskyldur en 150 svöruðu. Hátt hlutfall svarenda (63%) sem misst hafði húsnæði á nauðungarsölu hafði ekki nýtt sér nein úrræði vegna fjárhags- eða húsnæðisvanda.

einföld reiknivél á ebox.is

„Það erfitt að segja til um af hverju svona margir hafa ekki vitað um þau úrræði sem þeim stóðu til boða, ekki skilið þau eða fengið misvísandi upplýsingar um hvað þeim stóð til boða. Ein af skýringunum getur verið það mikla álag sem er á þeim einstaklingum og fjölskyldum sem fóru í gegnum fjárhagsþrengingar og húsnæðismissi eftir hrun, greiðsluaðlögun og gjaldþrot. Einnig hafa mörg álitamál verið uppi um meðferð fjármálafyrirtækja á skuldum og ábyrgðum vegna lánveitinga sem þau veittu fyrir hrun og erfitt fyrir almenning að fylgjast með og jafnvel skilja hver staða þeirra er gagnvart fjármálafyrirtækjum,“ segir Hera Ósk Ein-

arsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Hera segir að í félagsþjónustunni finni þau vel fyrir því hvernig hækkandi húsaleiga og kröfur um meiri fyrirframgreiðslur og tryggingar á leigumarkaði geri leigjendum erfitt fyrir og þar spili sterkt inn veik staða einstaklinga gagnvart viðskiptabanka sínum eftir forsendubrest í hruninu. Þetta komi ekki síst fram í auknum fjölda umsókna um félagslegt húsnæði. „Eðlilega hafa foreldrar áhyggjur af áhrifum fjárhagslegra breytingar heimilisins á börnin sín og það óöryggi og óvissu sem því fylgir. Það er mikilvægt að foreldrar kynni sér á heimasíðum síns sveitarfélags hvaða þjónusta er í boði, s.s.

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

hvatagreiðsla vegna íþrótta- og tómstundaþátttöku barna.“ Hera bætir við að oft sé nauðsynlegt að fá löglærða aðila til að fara í gegnum fjármálin fyrir hönd almennings en því fylgi líka kostnaður sem fólk sjái ekki fram á að geta greitt og veigri sér því við að nýta sér þá þjónustu. Hafi greiðsluaðlögun ekki endað með gjaldþroti geti kröfuhafar endurvakið kröfur sínar á fimm ára fresti og það hvílir því á mörgum. Skrifstofa Umboðsmanns skuldara hafi sérþekkingu á þessum málum og aðstoði skuldara við að finna þá leið sem best hentar hverjum og einum miðað við þeirra forsendur og því mikilvægt að fólk leiti til þeirra eftir ráðgjöf og aðstoð.

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001


2

fimmtudagur 28. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR

BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR

-fréttir

pósturu vf@vf.is

SUMARLESTUR AÐ HEFJAST

Aldraðir ánægðir með þjónustu í Garði

Boðið verður upp á skemmtilegt sumarlestursbingó í sumarlestri Bókasafnsins sem hefst 1. júní nk. Allir þátttakendur hafa möguleika á að fylla 3 bingóspjöld og vera dregnir úr þátttökupottinum alls þrisvar sinnum. Þátttakendur fá bókaskrá til að halda utan um lestur sinn og stimpil eða límmiða eftir hverja lesna bók. Vertu með, lestur borgar sig alltaf.

ÁHUGAVERÐ STÖRF Reykjanesbær óskar eftir starfsmönnum í eftirfarandi störf: Stuðningur inn á heimili / Tilsjón Tilsjónarstarfið felur í sér aðstoð við foreldra við að sinna uppeldisskyldum sínum sem best auk aðstoðar við heimilishald, skipulag, utanumhald osfr. er varðar heimilið. Um er að ræða 75% stöðugildi á dagvinnutíma. Sumardagsvist fyrir fötluð börn Óskað er eftir starfsfólki í sumardagsvist með fötluðum börnum. Vinnutími 8-16 frá miðjum júní fram í miðan ágúst. Liðveisla Óskað er eftir tímavinnufólki í liðveislu og þjónustu inn á heimili, um óreglulegan vinnutíma er að ræða. Umsóknarfrestur er til 1. júní nk. Frekari upplýsingar veitir Jóhanna María Ævarsdóttir félagsráðgjafi í síma 421-6700 eða á johanna.m.aevarsdottir@reykjanesbaer.is. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um.

TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR

KENNARAR ÓSKAST Tónlistaskóli Reykjanesbæjar óskar eftir að ráða kennara í eftirtaldar námsgreinar fyrir skólaárið 2015-2016: • Trommur og slagverk. Æskilegt er að sami aðili kenni hvoru tveggja • Fiðlu og Víólu. Æskilegt er að sami aðili kenni hvoru tveggja • Forskóla 1 og 2 (6 og 7 ára börn), Píanó, Klarínett, Flautu, Píanó-rytmískt, Rafgítar Sum þessara starfa eru tímabundin vegna leyfa en önnur eru framtíðarstörf.

Starfsemi hafin að nýju á skurðdeild HSS

S

tarfsemi hófst að nýju á skurðdeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sl. föstudag. Stofnunin hefur gert samning við fyrirtækið Gravitas, sem Auðun Sigurðsson skurðlæknir rekur, en Auðun hefur sérhæft sig í aðgerðum vegna yfirþyngdar. Samningur HSS og Gravitas er tímabundinn og nær til loka september á þessu ári. Gravitas leggur til starfsfólk á sjálfa skurðstofuna, en HSS til annarra verka, m.a. í móttöku, skráningu, vöknun, sótthreinsun o.fl.

Að undanförnu hefur starfsfólk HSS unnið að undirbúningi þessarar starfsemi og öll aðstaða, tæki og búnaður hefur verið yfirfarin. „Það er ánægjulegt að sú aðstaða sem HSS hefur til skurðstarfsemi skuli nú vera tilbúinn til notkunar að nýju. Við væntum þess að framhald verði á starfsemi á skurðstofum HSS og þessi samningur verði grunnur að enn frekari starfsemi þar,“ segir Halldór Jónsson, forstjóri HSS.

Hluti vegarins að Reykjanesvita lagaður

Á

standið á veginum út að Reykjanesvita hefur verið mjög slæmt nú í vor. Hann hefur eiginlega verið hálfgerð vegleysa og hafa ferðamenn þurft að fara hægt yfir, enda fjölmargar holur og margar hverjar stórar. Ljósmyndari Víkurfrétta skoðaði veginn í síðustu viku og á sama

tíma var fulltrúi Vegagerðarinnar að gera úttekt ástandi vegarins. Hann sagði að fjárveitingar leyfðu aðeins viðhald á hluta vegarins eða frá þeim stað þar sem malbik endar og að gatnamótum þar sem ekið er annars vegar að Reykjanesvita og hins vegar að Gunnuhver.

Holóttur vegur við Reykjanesvita. VF-mynd: Hilmar Bragi

Umsóknarfrestur er til og með 8. júní nk. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Árni Haraldsson, skólastjóri í síma 420-1400 eða 863-7071 eða Karen Janine Sturlaugsson, aðstoðarskólastjóri, í síma 420-1400 eða 867-9738.

NESVELLIR

STARFSMENN ÓSKAST Reykjanesbær óskar eftir að ráða tvo starfsmenn í 50% starf á þjónustuborð á Nesvöllum. Unnið er 4 tíma alla virka daga. Megin starfssvið er móttaka, símsvörun, upplýsingagjöf. Umsóknarfrestur er til og með 4. júní nk. Frekari upplýsingar um störfin veitir Ása Eyjólfsdóttir, forstöðumaður öldrunarmála, í síma 420-3443 eða í gegnum tölvupóst: asa.eyjolfsdottir@reykjanesbaer.is.

UPPLÝSINGAR UM STÖRFIN Sækja skal um öll ofangreind störf á vef Reykjanesbæjar: www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig eru að finna upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur.

Mikill hraðakstur XXEllefu ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 166 km. hraða á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða á lögreglustöð, auk þess sem hann þarf að greiða 150.000 króna fjársekt og fær þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá. Annar ökumaður mældist á 162 km. hraða og sá þriðji ók á 157. km. hraða. Aðrir óku ekki eins hratt en þó vel yfir hámarkshraða.

Skilríkjalaus síbrotamaður

XXLögreglan á Suðurnesjum færði á þriðjudag ökumann á lögreglustöð þar sem hann gat ekki framvísað umbeðnum skilríkjum. Við nánari athugun kom í ljós að hann hafði margoft verið tekinn fyrir fíkniefnaakstur. Sýnatökur staðfestu neyslu hans á amfetamíni og ópíumblönduðu efni.

Kannabislykt barst langar leiðir XXLögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum haft afskipti af þremur einstaklingum á mismunandi stöðum sem allir voru með fíkniefni í fórum sínum. Í öllum tilvikunum lagði svo mikla kannabislykt frá vistarverum þeim sem mennirnir dvöldu í að hún barst langar leiðir. Allir voru þeir handteknir og framvísuðu mismiklu magni af kannabisefnum.

XXFu l ltr úar í Öldungar áði Suðurnesja sátu fund bæjarráðs Sveitarfélagsins Garðs í síðustu viku og fór fram góð og gagnleg umræða um málefni aldraðra í Garði, segir í vikulegum pistli Magnúsar Stefánssonar, bæjarstjóra, á vef sveitarfélagsins. „Bar þar hæst málefni Garðvangs, en aldraðir hafa lagt mikla áherslu á að í Garðvangi verði á ný rekin hjúkrunarþjónusta við aldraða. Þá kom fram að aldraðir eru ánægðir með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir þeim, en á fundinum var rætt um ýmislegt sem mætti gera til þess að gera góða þjónustu enn betri. Það er mikilvægt fyrir sveitarstjórnarmenn að eiga gott samstarf við aldraða um þeirra málefni,“ segir Magnús bæjarstjóri í pistlinum.

Lausaganga hunda í bæjarráði Garðs XXFjallað var um hundahald í Garðinum á fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Garðs í síðustu viku. Var ákveðið að leita eftir samstarfi við hundaeigendur í bænum um þeirra málefni, en talsvert hefur verið kvartað undan því að hundar gangi lausir og að íbúar verði fyrir ónæði af völdum hunda. Hagsmunir hundaeigenda, bæjaryfirvalda og íbúa fara saman hvað það varðar að allir séu sáttir við ástand mála, segir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, í pistili sem hann skrifar á vef sveitarfélagsins.

Sveitarfélagið Vogar:

Tímanlega í gerð fjárhagsáætlunar XXBæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga kom saman til fundar síðdegis í gær. Auk hefðbundinna starfa bæjarstjórnar þá var hafist handa við fjárhagsáætlun ársins 2016 og vinna við þriggja ára áætlun áranna 2017 til 2019. Þessi vinna er mun fyrr á ferðinni í Vogum nú en oft áður. Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, segir í vikulegu fréttabréfi sem hann sendir út að tilgangurinn með því að byrja nú í sumarbyrjun er ekki síst sá að bæjarstjórn móti þegar í upphafi stefnu og ákvarði ýmis fjárhagsleg markmið fyrir starfsemina næstu árin. Fundir bæjarstjórnar Voga fara fram í Álftagerði og eru opnir almenningi sem gefst með þessu móti kostur á að fylgjast með störfum sveitarstjórnar og hlýða á umræður um einstök mál.

Gatnaframkvæmdir hafnar í Vogum XXHafist var handa við endurgerð Aragerðis milli Tjarnargötu og Ægisgötu í Vogum í síðustu viku. Að auki verður ráðist í endurnýjun brunahana við Hafnargötu, sem og gerð göngustígs að skógræktarsvæðinu við Háabjalla, um undirgöng undir Reykjanesbraut. Ráðgert er að þessum framkvæmdum öllum verði lokið fyrir lok júnímánaðar.Íbúar við Aragerði munu verða fyrir talsverðum óþægindum meðan á framkvæmdum stendur. Af hálfu verktakans er lögð á það áhersla að allir íbúar við götuna geti að mestu komist til og frá húsum sínum án vandkvæða, en þó er óumflýjanlegt að í einhverjum tilvikum þurfi að loka götunni.


4

fimmtudagur 28. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-fréttir

pósturu vf@vf.is

Hæfingarstöðin í Reykjanesbæ:

Horft til framtíðar með nýju húsi á Ásbrú

S

Fékk kynningu á loftrýmisgæslu flughersins XXEins og Suðurnesjamenn urðu varir við sinnti flugher Bandaríkjanna loftrýmisgæslu hér á landi fyrir Nato og notaði við það meðal annars fjórar Phantom orrustuþotur. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, fékk á dögunum kynningu á verkefninu. Á meðfylgjandi mynd er hann ásamt liðsforingja flugdeildarinnar, Mark Sadler og fulltrúum Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli, þeim Jóni B. Guðnasyni og Georg Friðrikssyni.

Vorferð félags eldri borgara á Suðurnesjum í Eyjafjörð

verður farin 10. - 12. júní 2015. Verð á ferðinni er kr. 33.000,Innifalið í verði: Súpa á Gauksmýri, gisting á Öngulstöðum ásamt morgun- og kvöldverði báða dagana.

íðastliðið haust var settur á laggirnar starfshópur sem skipaður var fulltrúum frá meiri– og minnihluta bæjarstjórnar, auk starfsmanna Velferðarsviðs og Umhverfissviðs, með það að markmiði að finna nýtt húsnæði fyrir Hæfingarstöðina í Reykjanesbæ. Eftir að hafa skoðað marga möguleika var niðurstaðan að Keilisbraut 755 uppfyllti óskir um stærð og möguleika á skipulagi í samræmi við þarfir starfseminnar. Undirritaður var langtíma leigusamningur við Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. í vetur um afnot af húsnæðinu og framkvæmdir hófust strax. Á dögunum flutti starfssemi Hæfingarstöðvarinnar í nýja húsnæðið og var formleg opnun þann 22 maí sl. Með flutningunum er Hæfingarstöðin komin í miðju vaxandi samfélags nýsköpunar og fræða. Húsnæðið er um 700 fm, aðstaðan er stærri en áður og býður upp á marga möguleika. Í nýja húsnæðinu eru fleiri einstaklingsrými þar sem hægt er að vera í næði. Eins er gert ráð fyrir rýmum t.d. fyrir skynörvun og aðstöðu til líkamlegrar og andlegrar þjálfunar. Í húsnæðinu er stór vinnusalur sem býður upp á að hægt er að taka að sér stærri pökkunarverkefni og

Fanney St. Sigurðardóttir forstöðuþroskaþjálfi hjá Hæfingarstöðinni í Reykjanesbæ tók við lyklunum á nýja húsnæðin frá Sigurgesti Guðlaugssyni frá Þróunarfélag i Keflavíkurflugvallar. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson

ýmislegt annað, einnig er stefnan að vera með Listasmiðju. Útisvæði er mjög gott og býður upp á möguleika á að setja t.d. upp gróðurhús og afþreyingu. Markmið með Hæfingarstöðinni er að notendur geti sótt dagþjónustu við hæfi, efla sjálfsöryggi og starfshæfni þeirra og að þau geti unnið að uppbyggilegum viðfangsefnum. Möguleiki er í framtíðinni að leigja allt húsið til að koma á fót starfsþjálfun. Starfshópurinn lagði í upphafi mikla áherslu á að horft yrði til framtíðar í leit að húsnæði og

bæjaryfirvöld voru á einu máli um að búa vel að þessum málaflokk, þrátt fyrir erfiðleika í rekstri sveitarfélagins. Starfsemi sem þessi treystir á að samfélagið taki þátt í að þróa starfsemina áfram þannig að notendur geti þróað hæfileika sína bæði sem einstaklingar og þátttakendur í samfélaginu og vill starfshópurinn hvetja fyrirtæki á Suðurnesjum til að hafa í huga á hvern máta þau geta styrkt starfssemina. F. h. Starfshópsins, Jasmina Crnac.

Pantanir teknar til 29. maí. Hafið samband við: Örn, 846 7334, Vogum Lydíu, 423 7604, Sandgerði Brynju, 422 7177, 849 6284, Garði Bjarney, 421 1961, 822 1962, Reykjanesbæ Rútan fer frá: Auðarstofu, Garði kl. 8:00, Miðhúsum, Sandgerði kl. 8:30 Nesvöllum, Reykjanesbæ kl. 9:00 Staðfestingargjald kr. 10.000,sem greiðist á Nesvöllum kl. 15:00 - 16:00 þann 29. maí, er kostnaður við rútu. Tökum ekki kort. Geymið auglýsinguna.

FJÓRAR HAGNÝTAR NÁMSBRAUTIR Nám í skóla - nám á vinnustað FISKTÆKNI Innritun hafin fyrir haustönn 2015 Fisktækniskóli Íslands

býður upp á fjölbreytt nám í sjávarútvegi á framhaldsskólastigi. Námið er hagnýtt tveggja ára nám sem er byggt upp sem önnur hver önn í skóla og hin á vinnustað. Nemendur geta valið sér námsleiðir í sjómennsku, fiskvinnslu og fiskeldi. Verkefni og vinnustaðir eru valdir með hliðsjón af áhuga hvers og eins.

Nánari upplýsingar hjá starfsmönnum Fisktækniskóla Íslands í síma 412-5966 eða á www.fiskt.is

Tveggja ára hagnýtt framhaldsskólanám til starfa í sjávarútvegi og fiskeldi. Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf. Á Fisktæknibraut er hægt að velja þrjár línur: Sjómennska/veiðar - Fiskvinnsla- Fiskeldi Hvert námsár skiptist í eina önn í skóla og eina á vinnustað undir leiðsögn tilsjónamanns (72 ein).

MAREL VINNSLUTÆKNI

Eins árs nám við vélar og hugbúnað frá Marel. Inntökuskilyrði: Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi. Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám undir leiðsögn tilsjónamanns (36 ein).

GÆÐASTJÓRN

Eins árs nám í gæðstjórnun. Inntökuskilyrði: Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi. Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám undir leiðsögn tilsjónamanns (36 ein).

NETAGERÐ

Þriggja ára iðnnám með mikla starfsmöguleika til starfa við veiðarfæragerð (48 ein).

Námskeið

Við bjóðum fyrirtækjum og einstaklingum upp á ýmis námskeið svo sem HACCP, vélstjórn, smáskipanám og fl. sjá heimasíðu.

Spennandi blanda bóklegs og verklegs náms sem gefur mikla starfsmöguleika eða til frekari menntunnar. Víkurbraut 56 240 Grindavík, info@fiskt.is


Markhönnun ehf

Kræsingar & kostakjör

grísasnitsel

í raspi, frystivara

998

grillpylsUr 2 teg

Krassandi/fjölsKyldU

998

Kr/pK

grísapottréttUr

í sveppasósU/fersKUr

-30% 1.539

Kryddsmjör

m/hvítlaUK - jUrtaKr.

197

áÐUr 2.198 Kr/Kg

áÐUr 219 Kr/stK

lambalærisneiÐar

flórídana safar

2.182

189

áÐUr 2.598 Kr/Kg

Kr/stK

fersKar

Kr/pK

3 teg, 1l ferna

sérbaKaÐ

vínarbraUÐ

-40% 119

áÐUr 198 Kr/stK

oreo Kex

nabisco 66 gr

-23% 99

áÐUr 129 Kr/pK

Kauptu þrjú á 399kr! (fullt verð 597)

Nýtt!

Kaffitár 250 gr

KaramellU/malaÐ

999 Kr/stK

food doctor

6teg, næringarstyKKi

199 Kr/stK

hvítlaUKsbraUÐ coop, 2 teg

-33% 199

áÐUr 298 Kr/Kg

bláber

box 125 gr

-50% 299

áÐUr 598 Kr/pK

laxabitar

x-tra, 4x100gr

-20% 746

áÐUr 933 Kr/Kg

Tilboðin gilda 28. maí – 31. maí 2015 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


6

fimmtudagur 28. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-ritstjórnarbréf

-viðtal

pósturu olgabjort@vf.is

Páll Ketilsson skrifar

Sláandi niðurstöður Það eru sláandi niðurstöður úr könnun velferðarráðuneytisins sem segir að átta af hverjum tíu fjölskyldum á Suðurnesjum sem misstu húsnæði sitt á nauðungarsölu á árunum 2008-2011 búi nú í leiguhúsnæði. Þetta fólk virðist ekki hafa nýtt sér opinber úrræði sem í boði voru vegna skorts á upplýsingum um þau, úrræði sem hefðu komið þeim að gagni. Eitthundrað og fimmtíu fjölskyldur af 355 svöruðu spurningum í þessari könnun og 63% þeirra sem höfðu misst húsnæði sitt á nauðungarsölu hafði ekki nýtt sér nein úrræði vegna fjárhags- og húsnæðisvanda. Það er með öllu óskiljanlegt hvernig þetta má vera. Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar, segir erfitt að segja til um hvers vegna svona margir hafi ekki vitað um þau úrræði sem stóðu til boða. Langflestir sem lentu í þessum hremmingum hafa komið sér fyrir í leiguhúsnæði og líklega margir á Ásbrú en einnig leigt af fjármálafyrirtækjunum sem höfðu „eignast“ húsin eða íbúðirnar þeirra. „Það erfitt að segja til um af hverju svona margir hafa ekki vitað um þau úrræði sem þeim stóðu til boða, ekki skilið þau eða fengið misvísandi upplýsingar um hvað þeim stóð til boða. Ein af skýringunum getur verið það mikla álag sem er á þeim einstaklingum og fjölskyldum sem fóru í gegnum fjárhagsþrengingar og húsnæðismissi eftir hrun, greiðsluaðlögun og gjaldþrot. Einnig hafa mörg álitamál verið uppi um meðferð fjármálafyrirtækja á skuldum og ábyrgðum vegna lánveitinga sem þau veittu fyrir hrun og erfitt fyrir almenning að fylgjast með og jafnvel skilja hver staða þeirra er gagnvart fjármálafyrirtækjum,“ segir Hera Ósk. Það er vissulega rannsóknarefni hvernig þetta gat farið svona en um leið skýring á því hvers vegna svona margar íbúðir og hús standa auð á svæðinu. Talandi um húsnæðismál á Suðurnesjum er vert að benda á viðtal Sjónvarps Víkurfrétta við Kjartan Eiríksson, framkvæmdastjóra Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. Þar svarar hann þeirri spurningu hvaða áhrif þúsund íbúðir á Ásbrú hafi haft á markaðinn á Suðurnesjum. Kjartan segir að vissulega hafi margir haft af þessu áhyggjur. Af 900 fjölskylduíbúðum á Ásbrú eru um 700 í leigu en þá hefur einnig verið mikil aðsókn í atvinnuhúsnæði. Þegar litið væri til baka hafi heildaráhrifin verið mjög jákvæð fyrir Suðurnesin.

ÚTBOÐ Reykjanesbær óskar eftir tilboðum í gerð hjólaog göngustígs frá Eyjavöllum í Reykjanesbæ að bílastæðum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Verkið er fólgið í uppúrtekt, fyllingum, malbikun stígs og frágangi með stíg. Helstu magntölur eru uppúrtekt um 3.400 m3, fyllingar um 4.700 m3, malbikun 6580 m2. Verki skal lokið eigi síðar en 30. sept. 2015. Útboðsgögn verða afhend þeim er þess óska á tölvutæku formi hjá Tækniþjónustu SÁ ehf að Hafnargötu 60, 2. hæð, Reykjanesbæ frá og með miðvikudeginum 3. júní. 2015. Tilboð skulu hafa borist á skrifstofur umhverfissviðs Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 í Reykjanesbæ fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 11. júní 2015 og verða tilboð opnuð þar á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

vf.is

SÍMI 421 0000

Metnaðarfull dagskrá Sjóarans síkáta með ýmsum nýjungum. Öflugasta hátíð sinnar tegundar á landinu:

Skonrokkstónleikar og lifandi sjávardýr á bryggjunni „Við erum metnaðarfull í Grindavík og erum sífellt að reyna að þróa og gera bæjarhátíðina okkar glæsilegri með hverju árinu því Grindvíkingar gera miklar kröfur. Sjóarinn síkáti verður með ýmsar nýjungar í ár. Má þar nefna Skonrokkstónleika á laugardagskvöldinu í íþróttahúsinu, fiskasafn með lifandi sjávardýrum í fiskabúrum á bryggjukantinum við hátíðarsviðið á sjómannadeginum, keppnina sterkasti Víkingur heims með 8 útlenda keppendur, körfuboltamót fyrir yngri iðkendur. Leiktæki verða nú einnig á bryggjuballinu á föstudagskvöldinu, Sjóara síkáta hlaupið og síðdegistónleikar á hátíðarsviðinu. Þá verða Vísissystkinin með minningartónleika um Palla og Möggu í Grindavíkurkirkju auk þess sem í tilefni af 50 ára afmæli Vísis er bæjarbúum og gestum Sjóarans síkáta boðið að skoða fiskvinnslur fyrirtækisins undir leiðsögn eigenda,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar. Sjóarinn síkáti verður 5.-7. júní n.k. Dagskrá Sjóarans síkáta má sjá í heild sinni á www.sjoarinnsikati.is Nágrannar hvattir til að fjölmenna Þetta er sjöunda árið sem Þorsteinn heldur utan um skipulagningu Sjóarans síkáta. Hann segir að vissulega hafi veðrið talsvert að segja um hvernig til tekst með hátíðarhöldin en fyrstu langtímaspárnar líta vel út. „Við höfum upplifað hin ýmsu veðrabrigði undanfarin ár. En í mínum huga snýst þetta um hvernig veðrið er innra með okkur og þá er allt hægt og allir skemmta sér vel. Þetta verður frábær helgi, við munum gleðjast með sjómönnunum okkar og gerum það með stæl alla sjómannadagshelgina með glæsilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna og við hvetjum nágranna okkar til að fjölmenna hingað og taka þátt í fjörinu með okkur í Grindavík þar sem verður rjóminn af bestu skemmtikröfum landsins. Að vanda verður Sjómanna- og vélstjórafélagið með mjög veglega dagskrá á Sjómannadeginum auk þess sem margt annað skemmtilegt verður í boði fyrir alla fjölskylduna í Grindavík. Sjóarinn síkáti er til heiðurs sjómanninum og fjölskyldu hans,“ segir Þorsteinn.

Öflugasta hátíð sinnar tegundar Sjóarinn síkáti hefur fest sig í sessi sem öflugasta fjölskyldu- og sjómannadagshátíð landsins. Á sama tíma og hefðbundin hátíðarhöld sjómannadagsins hafa víða verið lögð niður undanfarin ár hafa Grindvíkingar tekið þá stefnu af efla Sjóarann síkáta enn frekar enda er Grindavík einn öflugasti sjávarútvegsbær landsins. Mikið er lagt upp úr því að hátíðin er fyrst og fremst fjölskylduhátíð þar sem fjölbreytnin er í fyrirrúmi en tónlistin skipar stóran sess á hátíðinni. Margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar koma fram á Sjóaranum síkáta að þessu sinni. Segja má að Sjóarinn síkáti sé fyrsta bæjarhátíð sumarsins á landsvísu. Aðsókn hefur verið mjög góð undanfarin ár en um 20-25 þúsund manns hafa verið í Grindavík á Sjóaranum síkáta. Hátíðin hefur verið haldin á annan áratug en fyrir sjö árum voru gerðar talsverðar breytingar á hátíðinni sem tekist hafa virkilega vel og áfram eru Grindvíkingar að þróa hana áfram. Nóg pláss á tjaldstæðinu „Við vildum auka þátttöku heimafólksins á sínum tíma og jafnframt fá góða gesti í bæinn þessa helgi sem er orðin að eins konar grindvísku ættarmóti með tilheyrandi gestum sem hafa verið til mikillar fyrirmyndar. Með því að fá heimafólk til að skreyta bæinn og skipta honum upp í litahverfi varð í raun algjör sprenging í þátttöku Grindvíkinga. Föstudagskvöldið hefur fest í sessi með skrúðgöngu og skemmtilegu bryggjuballi og svo er líf og fjör alla helgina með tónlist, skemmtiatriðum, listviðburðum og uppákomum þar sem við leggjum upp úr fjölbreyttri fjölskyldudagskrá alla helgina sem nær hámarki á sunnudeginum, sjálfum sjómannadeginum. Það besta við þessa bæjarhátíð okkar Grindvíkinga að mínu mati er hversu margir koma að henni og bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega viðburði til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans,“ segir Þorsteinn. Tjaldsvæðið í Grindavík er glæsilegt og hefur aðsókn þar verið góð á Sjóaranum síkáta. Þar er nóg pláss alla helgina. Aldurstakmark er 20 ár og er næturgæsla á svæðinu þar sem unglingafyllerí er einfaldlega ekki liðið. Dagskrána er hægt að nálgast í heild sinni á www. sjoarinnsikati.is.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Sigurður Friðrik Gunnarsson, siddi@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur P Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.


Opel Mokka Verð frá: 4.690.000 kr. Útborgun frá aðeins: 469.000 kr.

OPEL MOKKA Bílabúð Benna áskilur sér rétt til breytinga á verði og búnaði án fyrirvara

EINN RÓTSTERKUR FRÁ OPEL! Ef þú vilt sitja mátulega hátt í umferðinni og njóta útsýnisins í botn, þá er Opel Mokka akkúrat málið. Þar ertu umvafin(n) góðu rými og gæðainnréttingu, með öll stjórntæki innan seilingar. Þetta er bíll sem sameinar kraft, lipurð og flottar línur – rótsterkur Mokka frá Opel. Annað árið í röð völdu lesendur Auto Bild, Opel Mokka, 4X4 bíl ársins í Þýskalandi. Þökk sé þýsku hugviti og skemmtilegum aksturseiginleikum. Kynntu þér Opel Mokka á opel.is eða á benni.is Reykjavík Tangarhöfða 8 590 2000

Reykjanesbær Njarðarbraut 9 420 3330

Opið virka daga frá 9 til 18 og laugardaga frá 12 til 16. Verið velkomin í reynsluakstur.

Bílabúð Benna og Lykill gera þér kleift að eignast nýjan Opel á þægilegan máta. Útborgun er að lágmarki 10% af verði bílsins og Lykill lánar þér afganginn til allt að sjö ára. Þú velur þér nýjan bíl hjá Bílabúð Benna og sölumenn sjá um að ganga frá láninu. Lánshlutfall ræðst af lánshæfis- og/eða greiðslumati hvers umsækjanda og getur hæst orðið 90%. Skylt er að kaskótryggja bifreiðina á lánstímanum.


8

fimmtudagur 28. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal

pósturu olgabjort@vf.is

Kristjana dúxaði í Menntastoðum og Keili og lýkur háskólanámi í júní:

Dúxinn sem hélt að hún væri vitlaus

Kristjana Þórarinsdóttir hafði talið sjálfri sér trú um að hún gæti ekki lært, að bóklegt nám væri ekki fyrir hana og hún var sannfærð um að ef hún færi í skóla yrði hlegið að því hvað hún væri vitlaus. Hún glímdi lengi við lítið sjálfstraust í námi og þurfti að sanna fyrir sjálfri sér og öðrum að hún gæti þetta víst og það með eindæmum vel. Hún hóf gönguna hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) í Grunnmenntaskólanum. Fór þaðan í staðnám Menntastoða og loks í háskólabrú Keilis til þess að öðlast ígildi stúdentsprófs. Kristjana lauk nýverið við lokaverkefni sitt í sálfræði við Háskóla Íslands og mun útskrifast með BS gráðu í byrjun júní. Lokaverkefnið hennar var rannsókn á viðfangsefni sem hefur lítið verið skoðað hér á landi og Kristjana hefur sett sér það markmið að verkefnið hafi tilfinnanleg áhrif í samfélaginu.

Þ

eir sem hefja nám á fullorðinsárum þurfa oftar en ekki að brjóta múra hugarfarsins og byggja upp trú á eigin getu í námi. Saga Kristjönu er gott dæmi um það hvaða áhrif nám á fullorðinsárum hefur á einstaklinginn og hvernig það að stíga skrefið getur opnað dyr að ótal möguleikum sem áður þóttu aðeins fjarlægur draumur. Við byrjum á að forvitnast um það hvernig það kom til að Kristjana fór í nám og hvers vegna hún lét verða af því haustið 2009. „Á þessum tíma var orðið lítið að gera í vinnunni og ég ákvað að loka þeim rekstri sem ég var með. Ég var á atvinnuleysisbótum í stuttan tíma áður en haft var samband við mig og mér boðið að fara í Grunnmenntaskólann hjá MSS. Þetta var eiginlega meira svona til þess að fara eitthvað út og hafa eitthvað að gera. Og þarna var maður kominn í áttunda bekkjar stærðfræði og stafsetningarpróf og sjálfstyrkingu. Ég fann að ég væri ekki alveg jafn ómöguleg til náms eins og ég hélt,” segir Kristjana. Fékk martraðir um skólagönguna „Ég man eftir því þegar ég var yngri, af því ég hætti í framhaldsskóla, þá fékk ég martraðir um að ég myndi mæta í skólann og allir myndu hlæja að mér af því ég væri svo vitlaus, ég gæti bara ekki lært á bók. Ég væri meira svona týpa sem þyrfti bara að fara í verklegt nám, iðnnám eða svoleiðis,“ rifjar Kristana upp. Þegar hún fór af stað fann hún að þetta var ekki rétt hjá henni og að hún gæti alveg lært. „Þetta var allt fullorðið fólk í náminu og allt fólk sem hafði flosnað upp úr námi af einhverjum ástæðum. Það myndaðist svona hópmórall að fara áfram í Menntastoðir. Við hvöttum hvert annað áfram og ég fór eiginlega svolítið út af þrýstingi og þetta var svona: Já, við gerum þetta bara! -viðhorf.“ Skrefið var þó risavaxið í huga Kristjönu á þessum tíma. Þetta var hálft ár, undirbúningur fyrir meira nám og hún vissi að þetta yrði erfitt og tæki á. „Ég var náttúrulega bara skíthrædd, það var ekkert öðruvísi. Ég kom svo þann 3. janúar til þess að byrja í Menntastoðum, búin að fara í bókabúðina og vissi ekkert hvað ég átti að kaupa, kunni ekki að glósa og ýmislegt í þessum dúr. Þetta var allt voðalega spes en svo bara gekk þetta þvílíkt vel.” Var lögð í einelti í grunnskóla Kristjana hætti í námi í framhaldsskóla á sínum tíma í uppreisn gegn námi og sannfæringu um að geta ekki lært. Hún telur nokkra samverkandi þætti hafa átt þátt í því að hún hélt ekki áfram í námi og er í raun efins um að það hefði nokkurn tíma geta orðið svo að hún færi hina hefðbundnu leið úr grunnskóla og beint í framhaldsskólanám. „Ég var ekki tilbúin að fara í nám, var ekkert að fara að læra, bara að fara í framhaldsskóla af því að maður átti að gera það. Ég var ekki með rétta hugarfarið, var rosalega lítil í mér og fannst ég verri en allir aðrir, með lítið sjálfsálit og það bitnaði mjög mikið á mér,“ segir Kristjana og bætir við að í grunnskóla hafi hún verið lögð í mikið einelti og telur að það hafi hvílt þungt á sér ennþá þarna. Fjölskylduaðstæðurnar hafi líka haft

áhrif. „Ég ólst upp á Djúpavogi og fór í skóla á Egilsstöðum og það var erfitt, maður fór að heiman til þess að fara í skóla. Þarna var ég ein í herbergi með stelpu frá Seyðisfirði og þetta var bara of mikið miðað við það á hvaða stað ég var. Ég hefði þurft að vera í vernduðu umhverfi til þess að þetta gengi upp en ég er ekki viss um það hefði gert það, þó það hefði verið.“ „Þurfti ekkert að takast á við það hvað ég væri vitlaus“ Kristjana var kölluð á fund skólameistara af því að hún var í raun búin að skrópa sig úr náminu. „Hann bauð mér að fara heim og læra og taka prófin, þótt ég væri í raun ekki með próftökurétt. Ég var með svo góðar einkunnir úr grunnskóla og honum fannst það mjög mikil synd að ég kasta þessu tækifæri á glæ. Ég tók í höndina á honum, sagðist mæta en fór svo að vinna og hafði engan tíma í þetta. Mér fannst það held ég bara fínt að vera laus frá þessu því þá þurfti ég ekki að takast á við hvað ég væri vitlaus.‟ Kristjana lýsir sjálfri annars sem mjög duglegri og sjálfstæðri. Hún vann mikið á þessum árum og var búin að festa kaup á eigin íbúð aðeins 17 ára. Hún hafði annað viðhorf gagnvart sjálfri sér sem námsmanni. „Það var eitthvað sem ég taldi mér trú um að væri ekki fyrir mig. Ég las til dæmis aldrei mér aldrei til ánægju. Ég sagði við sjálfa mig að ég gæti ekki lesið, sem er bara kjánalegt, svona eftir á að hyggja. Aðspurð segir Kristjana að námið í Menntastoðum hafi tvímælalaust haft áhrif á viðhorf til náms og eigin getu. „Það víkkaði sjóndeildarhringinn og smátt og smátt var farið að grafa undan þeim viðhorfum að ég gæti ekki lært, ég gæti ekki lesið og að ég myndi aldrei geta farið í bóklegt nám. Ég fór í próf og það gekk vel og maður kynntist sjálfum sér á nýjan hátt. Námið hefur í raun áhrif á svo margt sem snertir daglegt líf. Þegar maður er að vaxa hefur það áhrif á allt í lífinu. Dúxaði í Menntastoðum og Keili Kristjana lagði mikinn metnað í námið og setti frá upphafi markið hátt. „Ég man að ég sagði við Hjörleif, sem var verkefnastjóri Menntastoða; ég ætla að klára námið með 9 í meðaleinkunn. Hann sagði við mig að það væri bara gott að klára Menntastoðir, ég skyldi bara byrja á því. Það væri átakið því þangað kæmi fólk aftur í nám eftir langa fjarveru og ekki skuli einblínt á einkunnir. Hann laumaði svo að mér við útskriftina að ég hefði verið hæst og þar sem ekki eru veitt verðlaun fyrir hæstu einkunn í Menntastoðum þyrfti ég að dúxa í Keili til þess að fá verðlaun. Ég hugsaði allan tímann í Keili að ég ætlaði að verða hæst. Ég lærði og lærði og lagði svo mikið á mig og þetta var svo skemmtilegt. Og ég varð hæst!”

„Ég má fara í háskóla!“ Þegar leið undir lok Menntastoða fékk nemendahópurinn áhrifaríka kynningu frá Keili sem breytti hugmyndum og markmiðum Kristjönu verulega. „Ég hlustaði á þessa stelpu sem kom og var að tala um sitt nám og ég hugsaði: Vá, hvað hún er klár! Mig langar að geta þetta. Ég má fara í háskóla og ég ætla þangað!“ Fyrir henni var háskóli risavaxið fyrirbæri en hún nefnir að allir mæti áskorunum í námi og þá sé gott að skoða styrkleika sína og kosti. „Ég var komin með risavaxið sjálfstraust og búin að sigrast á svo mörgu að mér fannst ég geta sigrað heiminn. Í háskólanum fékk ég 6 í fyrsta prófinu og fyrsti veturinn fór svolítið í að taka á því sem þurfti. Ég þurfti einhvern veginn að leggja allt í þetta og sjá hversu langt ég kæmist og vera bara nógu dugleg. Enginn mætti við útskriftina Saga Kristjönu er að mörgu leyti lík sögu þeirra sem hefja nám á fullorðinsárum. Þeir fara í gegnum persónulega viðhorfsbreytingu en um leið mæta þeir einnig hindrunum og ákveðnum viðhorfum samfélagsins. „Ég var spurð að því hvað ég væri að gera? Og ég svaraði að ég væri að læra að deila og læra hvort ætti að skrifa stóran eða lítinn staf og þurfti segja við sjálfa mig í leiðinni að ég væri ekki hallærisleg. Þá var ég spurð, til hvers?“ Þegar Kristjana útskrifaðist úr Keili var hún búin að segja við fjölskyldu sína og vinkonur að hún ætlaði að vera hæst. „Það mætti enginn á útskriftina mína vegna þess að fólk hélt ég væri bara eitthvað grey. Ég bauð fjölskyldunni og vinum í útskriftarveisluna því mér fannst þetta

mjög merkilegur áfangi. Þar kom fólk til mín og sagði: Vá, ég vissi ekki að þú værir svona klár, til hamingju! Þetta virðist hafa komið fólki á óvart.“ Námið fjarlæg „martröð“ Viðhorf fólks til námsins segir Kristjana hafi dálítið verið eins og hún væri að þessu af því að hún var atvinnulaus og bara að gera þetta til að hafa eitthvað að gera. „Þetta var svo miklu meira og ég varð bara ákveðnari í að sýna fram á það. Í dag er ég sú sem hvet aðra áfram í náminu við háskólann. Það er nefnilega svolítið fyndið að maður þarf að réttlæta það fyrir sjálfum sér og öðrum að vera orðin 36 ára og að stíga inn í grunnnám í framhaldsskóla.“ Námið byrjaði í raun sem fjarlæg „martröð“ hjá Kristjönu, en núna hefur hún lokið BS námi í H á -

skóla Íslands og bíður eftir svari um áframhaldandi nám. Lokaverkefni hennar byggir á rannsókn á áráttu og þráhyggjuhugsun kvenna eftir meðgöngu en um helmingur kvenna upplifir uppáþrengjandi ómeðvitaðar hugsanir um að skaða barnið sitt. Þessir hlutir eru þó lítið ræddir og því vill Kristjana breyta til hins betra. Varðandi ráð til annarra sem standa í svipuðum sporum og hún gerði, segir Kristjana: „Ég man þegar ég byrjaði í háskólanum. Ég sat fyrir utan skólann og hugsaði að það hlyti einhver að mæta mér í dyrunum og segja mér að fara heim. Þú ert alltof heimsk til að vera hérna! Hvað ertu að spá? Svo hugsaði ég svo sterkt; af hverju ekki ég eins og allir aðrir? Menntað fólk er einmitt fólk, eins og allir aðrir.“


TAX FREE

AF ÖLLUM VÖRUM

Aðeins fimmtudaginn 28. maí og föstudaginn 29. maí

Tax free tilboð jafngildir 19,35% afslætti af almennum vörum og 9,91% af matvörum. Að sjálfsögðu stendur Húsasmiðjan skil á virðisaukaskatti til ríkissjóðs.

*


10

fimmtudagur 28. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal

pósturu vf@vf.is

Ég hef ekki tekið það saman en mér líður eins og að það hafi verið 200 nei á móti hverju jái

Stofnandi AwareGo skoðar tilboð fjárfesta eftir mikla uppsveiflu að undanförnu:

Öryggisbrot mesta vandamálið í dag Íslenska fyrirtækið AwareGO er á fljúgandi siglingu eftir að gengið hafi á ýmsu frá stofnun þess fyrir átta árum. Þar eru framleidd einnar mínútu löng öryggisvitundarmyndbönd fyrir fyrirtæki og stofnanir. Ragnar Sigurðsson, eigandi og framkvæmdastjóri, segir að skipt hafi máli að hlusta á væntingar viðskiptavina og bæta ferlið. Auk stórra íslenskra fyrirtækja er 10. stærsti banki í heimi meðal viðskiptavina AwareGo og stefnt er að því að landa stórum í viðbót á næstunni. „Maður stökk út í djúpu laugina á sínum tíma og komst að því að það sem við vorum að gera þá hentaði ekki. Fyrsta útgáfan af myndböndunum var of löng og ekki það sem leitað var eftir. Ég hef ekki tekið það saman en mér líður eins og að það hafi verið 200 nei á móti hverju jái,“ segir Ragnar. Þá hafi verið farið í að fjármagna ný myndbönd út frá fínum ábendingum og það tók tíma og þau voru dýr í framleiðslu. „Síðasta sumar fengum við svo framleiðsluaðila til að vinna þetta með okkur. Við gerum tvö myndbönd á mánuði og þurfum ekki að framleiða 30 myndbönd fyrirfram sem kosta kannski 20 milljónir, heldur seljum við áskriftir, framleiðum og afhendum jafn óðum. Þetta er þægilegri rekstur og ekki þörf á leggja út mikið fjármagn fyrirfram í von og óvon um að seljist. Þá fáum við viðbrögð jafn óðum og getum breytt og bætt fyrir næstu framleiðslu.“ Öryggisbrot mesta vandamálið í dag Ragnar segir að markaður fyrir þessar lausnir sé einmitt að opnast um þessar mundir. Allir séu með

eldveggi og vírusvarnir og næsta áskorun sé að fyrirbyggja öryggisbrot . „Könnun sem gerð var fyrir nokkrum mánuðum sýndi að ef þessi mál eru tækluð vel, að fræða starfsfólkið, þá minnkar kostnaður vegna öryggisbrota um 55-60%. Þau eru mesta vandamálið í dag.“ Meginatriðið í myndbandavinnslunni sé alltaf eins; kynning í byrjun (þar sem hægt er að setja inn einkennismerki), svo fræðslumyndbandið og í lokin er textaglæra um hver skilaboðin voru. Þau sé hægt að sérsníða. „Við gerum þetta allt öðruvísi en aðrir. Það eru 19 aðilar í heiminum sem eru leiðtogar í svona og þeir eru allir með power point með rödd sem segir hvað má ekki og hverju þarf að passa sig. á. Við gerum nokkurs konar auglýsingar með öryggisvitund.“ Mörg fyrirtæki og stofnanir eyði klukkutíma af dýrmætum tíma starfsfólks í fyrirlestur, kannski einu sinni á ári, sem kannski skilur ekki nægilega mikið eftir sig. „Miklu nær að koma með svona stutt myndbönd, einu sinni til tvisvar í mánuði sem fólk horfir á þegar best stendur á.“

Heppinn með sölustjóra og framleiðendur Framleiðslufyrirtækið Snark gerir myndböndin fyrir AwareGo. „Þetta eru feykilega klárir strákar, mjög frjóir varðandi handritagerð og hugmyndir. Leikstjórinn þeirra var aðstoðarleikstóri Latabæjarþáttanna. Svo er sölustjórinn minn, Rögnvaldur, alveg rosalega góður. Ég var mjög heppinn að landa honum. Við tveir erum starfsmenn fyrirtækisins,“ segir Ragnar og bendir á að þeir séu búnir að byggja upp nokkuð gott tengslanet á liðnum árum. „Þegar við náum svona stórum aðilum til okkar eins og Credit Suisse bankann, þá segja þeir öðrum hvað þeir eru að gera í öryggismálum og þannig fréttist sem við erum að gera. Að þeir skuli treysta okkur til að gera þetta rétt.“ Ragnar deildi veltu svissneska bankans niður í starfsmannafjölda og svo niður í mínútur og segist hafa fengið út að mínútan kosti þá 26 milljónir. „Myndböndin okkar eru ein mínúta. Þeir borga okkur töluvert fyrir þetta en það kostar þá miklu minna að keyra þetta. Og svo kostar náttúrlega langmest að gera þetta ekki. Við reynum að sannfæra fyrirtæki um það. Það eru 80% líkur á miklum fjárhags-

legum skaða ef þetta er ekki gert. Í 1000 manna fyritæki kostar pakki fá okkur 3-4 milljónir. En það eru 50% líkur á því að þeir spari 130% meira.“ Í viðræðum við samkeppnisaðila Ragnar segist alltaf reyna að tengjast þeim sem hann hittir hverju sinni. „Fólk sem ég hef kynnst hefur kannski unnið sig upp í starfi á milli ára eða flutt sig á milli fyrirtækja og það getur nýst vel og er kannski hárrétta fólkið til að tala við þegar selja á vöruna síðar. Það skiptir máli að halda sambandi og senda reglulega eitthvað til að minna á sig.“ Þá notar Ragnar samfélagsmiðlana Twitter og Linkedin líka mjög mikið. „Núna setjum við eitt og eitt myndband á Linkedin og það fær mörghundruð áhorf.“ Þeir séu í viðræðum við tvo af þessum stærstu í sama bransa og þeir um að útvega þeim fræðsluefni í gegnum þeirra kerfin þeirra gegn söluþóknun. Það gæti vara vel hentað þeirra viðskiptavinum. „Einn af stærstu samkeppnisaðilum okkar sérhæfir sig bara í plat-tölvupósti en við erum með allt sviðið. Frá lokuðu rými, vírusvörnum til öryggi heima fyrir og þráðlausu kerfi heima.“ Góð tengsl geta borgað sig síðar Varðandi næstu skref segir Ragnar að verið sé að hugsa um að auka við framleiðsluna og fara inn á fleiri svið. „Það er vegna ráðlegginga frá okkar viðskiptavinum. T.d. að starfsmenn séu ekki að gera eitthvað sem þeir mega ekki eins og að ráðleggja eiturlyfjasölum um hvernig á að skjóta undan skatti. Það gerðist í einum banka og lak út og við það skaðaðist orðspor bankans.“ AwareGo sé í viðræðum við banka sem sé á lista yfir þá 25 stærstu, út frá meðmælum frá Credit Suisse. „Einnig hef ég verið í

sambandi við annan aðila sem ég hitti á sýningu 2010 og hef verið í sambandi við síðan. Hann starfar hjá 10. stærsta banka í heimi. Þar eru 140 þúsund leyfi á 5 tungumálum. Credit Suisse er með 50 þúsund.“ Eins og fram hefur komið getur tekið drjúgan tíma fyrir frumkvöðlafyrirtæki að ná góðum sprettum, vaxa og dafna. Ragnar vitnar í þekktasta fjárfesti á Íslandi sem sagði „Over night success takes eleven years“. „Ef maður einbeitir sér að því sem maður hefur trú á þá kemur að því að annað hvort springur allt í loft upp eða maður meikar það. Þó að ég sé menntaður hakkari með öryggisgráðurnar upp á tíu hvet ég viðskiptavini okkar til að koma með vandamálin til okkar sem við finnum svo lausnir á.“ Skara framúr í myndefni Spurður um framtíðaráform segir Ragnar að annars vegar sé hægt að láta AwareGo vaxa eins og núna en einnig sé kominn áhugi hjá fjárfestum vegna þess hve stórum samningum fyrirtækið sé að landa. „Það er áhugavert og við erum í viðræðum. Það myndi gefa okkur tækifæri til þess að stækka mun hraðar.“ Öryggisvitundarmarkaðurinn sé ristastór, um 140 milljarðar íslenskra króna. Þar af séu 19 stærstu aðilarnir með um tvo þriðju markaðarins. „Við stefnum að því að stríða þeim aðeins og reyna að komast á listann. Við erum í umsóknarferli núna um að fara inn á hann og eigum alveg tilkall til þess miðað við hversu vel búið er að ganga að undanförnu.“ AwareGo sé líka að gera þetta allt öðruvísi en hinir, sem hugsi aðallega að hugsa um hugbúnaðinn. „Við hugsum bara um kennsluna og að hægt sé að nota hana í hvaða hugbúnað sem er. Myndefnið er mikilvægast og þar eru gæðin best hjá okkur,“ segir Ragnar afar bjartsýnn að lokum.


Í M U N U K U A L Ð G VILTU BJÓÐA BRA

1.079 KR

1.849 KR

GOTT

151359

SWEET & FIRE-borgari, 3 Hot Wings, franskar, gos og Florida-stykki.

•

Glóðheitur Zinger-borgari með káli, sjóðheitri 2HOT4U-sósu og krassandi sinnepssósu.

SÍA

SWEET & FIRE

SVOOO

•

SWEET & FIRE

PIPAR \ TBWA

? U L S VEI


12

fimmtudagur 28. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

Sigruðu Hvannadalshnjúk á Hvítasunnudag

H

ópur Suðurnesjamanna, tengdur Keili á Ásbrú, sigraði Hvannadalshnjúk á Hvítasunnudag. Ferðin á hnjúkinn tók fjórtán tíma og var öllum mikil og ógleymanleg lífsreynsla. Til að komast á toppinn þurfti hópurinn að leggja að baki um 40 km. gönguleið og hækkunin var um 2100 metrar. Undirbúningur fyrir gönguna hefur staðið yfir í allan vetur og hefur hópurinn æft reglulega fyrir gönguna miklu. Eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmynd voru Keilisfánar teknir með í gönguna. Ekki er allur hópurinn á myndinni, því hluti hópsins, Naglarnir, voru lagðir af stað niður við myndatökuna.

Noregskonungur í Víkingaheimum

H

araldur Noregskonungur kom í óvænta heimsókn í Víkingaheima í síðustu viku. Þar var hann í fylgd Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Haraldur hafði stutta viðkomu á Íslandi á leið sinni til Bandaríkjanna. Forseti sýndi konungi víkingaskipið Íslending sem varðveitt er

í safninu í Reykjanesbæ og fræddi Gunnar Marel Eggertsson, sem smíðaði skipið og stjórnaði siglingu þess árið 2000, konung um skipið og ferðina sem farin var frá Íslandi til Grænlands, Kanada og Bandaríkjanna fyrir fimmtán árum. Myndir: Oddgeir Karlsson

Stolt Sea Farm er eitt af þróuðustu fiskeldisfyrirtækjum heims og hefur sérhæft sig í framleiðslu á hágæða sandhverfu, flúru og styrju. Stolt Sea Farm rekur fiskeldi í 6 löndum; Bandaríkjunum, Frakklandi, Noregi, Portúgal, Spáni og nú á Íslandi.

ATVINNA

Stolt Sea Farm Iceland hf á Reykjanesi óskar eftir starfsmanni í tímabundið starf (6 mánuðir) á skrifstofu fyrirtækisins. Starfssvið: - Samskipti við höfuðstöðvar fyrirtækisins - Aðstoð við innflutning og útflutning - Skýrslugerð af ýmsu tagi - Reikningar, færsla á bókhaldi, bankafærslur, laun ofl. - Önnur tilfallandi verkefni á skrifstofu

Hæfniskröfur: - Þjónustulipurð og góð samskiptahæfni - Reynsla og þekking á bókhaldi - Nákvæm og góð vinnubrögð - Þekking á Word, Excel. - Enska í bæði rituðu og mæltu máli

Umsóknir með ferilskrá skal senda á ssficeland@stolt.com Nánari upplýsingar veitir Sveinn í síma 5950800.

Ættarmót Meiðastaðaættarinnar Afkomendur Kristínar Þorláksdóttur og Þorsteins Gíslasonar halda ættarmót á Garðskaga 5. til 7. júní 2015 XXKristín Þorláksdóttir og Þorsteinn Gíslason ólust upp í Melbæ í Leiru hjá Kristínu Magnúsdóttur og Guðmundi Auðunssyni. Kristín og Þorsteinn giftust 15. október 1880 og bjuggu fyrstu 20 búskaparár sín í Melbæ. Þar eignuðust þau níu börn. Melbær brann um aldamótin 1899 – 1900 og fluttust þau þá að Meiðastöðum í Garði, þar fæddust fimm yngstu börnin. Á Meiðastöðum bjó fjölskyldan í 16 ár þar til hjónin fluttu til Reykjavíkur árið 1916. Yngstu börnin voru þá á aldrinum 9 til 15 ára. Það hefur þótt sérstakt hversu margir afkomendur Meiðastaðahjóna hafa lagt sjómennskuna fyrir sig og margir þeirra hafa verið skipstjórnarmenn. Einnig hafa konurnar í ættinni margar gifst sjómönnum, svo segja má að sjómennskan sé fjölskyldunni í blóð borin. Einnig hefur íþróttaáhugi og hæfni í íþróttum einkennt fjölskylduna í gegnum tíðina. Undirbúningur ættarmótsins hefur staðið yfir síðan 5. október 2014 Upplýsingar um tilhögun mótsins og dagskrá eru aðgengilegar á facebooksíðunni Meiðastaðir og afkomendur. Nánari upplýsingar gefa: Kristjana H. Kjartansdóttir í síma 4227278 - 8645250 Kolbeinn Pálsson í síma 5523335 - 8211433 Vigdís Pálsdóttir í síma 5575223 - 6618841


13

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 28. maí 2015

-viðtal

pósturu hilmar@vf.is

„Brúðkaup Fígarós“ sýnt í Bergi í Hljómahöll:

Óperufarsi í fyrsta íslenska óperustúdíóinu – Óperufélagið Norðuróp í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Hljómahöll

Ó

perufélagið Norðuróp í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Hljómahöll í Reykjanesbæ, setur upp gamanóperuna „Brúðkaup Fígarós“ eftir Wolfgang Amadeus Mozart við texta Lorenzo da Ponte. Leikstjóri og tónlistarstjóri er Jóhann Smári Sævarsson. Píanóleikur er í höndum Kristjáns Karls Bragasonar. Þar sem margir söngvarar eru um hvert hlutverk þá eru frumsýningar tvær, 29. og 30. maí en aðrar sýningar eru 3. og 4. júní nk. „Brúðkaup Fígarós“ er ein af vinsælustu óperum Mozarts og er sýnd reglulega í öllum óperuhúsum heims. Óperan er mikill farsi þar sem segir af greifa nokkrum, konu hans og þjónustufólki. Hún gerist á brúðkaupsdegi Figarós sem er þjónn greifans og Súsönnu þernu greifafrúarinnar. Greifinn er orðin leiður á konu sinni og leitar að öðrum ævintýrum annars staðar, þá aðallega hjá Súsönnu og þá hefst mikil og skemmtileg atburðarás. Óperan verður flutt í Bergi í Hljómahöll í Reykjanesbæ með píanóundirleik í leikmynd og búningum með leikhúslýsingu. Fluttir verða I og IV þáttur. Fram koma margir af okkar bestu og efnilegustu söngvurum af Suðurnesjum, Akranesi og af stór Reykjavíkursvæðinu. „Það er búið að blunda lengi í okkur hjá Norðurópi, að stofna óperustúdíó hér á Íslandi, þar sem þrátt fyrir margar góðar söngdeildir er ekkert óperustúdíó starfandi. Óperustúdíó er starfsþjálfun fyrir unga efnilega söngvara og söngkonur sem eru í framhaldsnámi eða búin með framhaldsnám en vantar en sviðsreynslu og sviðstækni. Þar fá þau þjálfun í túlkun og leik auk þess sem þau fá tækifæri til að stíga sín fyrstu skref á sviði, læra að undirbúa hlutverk og flytja í óperuuppfærslum undir leiðsögn reyndra atvinnumanna,“ segir Jó-

hann Smári Sævarsson, leikstjóri og tónlistarstjóri sýningarinnar. „Við erum að starta nokkurs konar óperustúdíói Norðuróps í Reykjanesbæ með uppfærslu á óperunni „Brúðkaup Fígarós“ eftir Mozart í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Hljómahöll. Aðdragandi að uppfærslunni hefur verið allt frá árinu 2008. Til stóð að setja upp „Brúðkaup Fígarós“ í heild sinni en við hrunið var verkefnið sett á ís. Síðasta vor fór svo vinna í gang fyrir alvöru en ákveðið að flytja bara fyrsta og fjórða þátt óperunnar sem tekur rúma tvo tíma í flutningi. „Sagan gengur upp þannig,“ segir Jóhann Smári og lofar skemmtilegum sýningum. Við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar stunda margir efnilegir nemendur söngnám, sem eru að fá sitt fyrsta tækifæri á að spreyta sig á óperusviðinu. „Við erum með fleiri en einn söngvara í flestum hlutverkum og sumstaðar þrjá,“ segir Jóhann Smári. Þau hlutverk sem ekki voru mönnuð með söngvurum innan skólans, þá voru sóttir söngvarar til Reykjanesbæjar, upp á Akranes og á höfuðborgarsvæðið. Óperan „Brúðkaup Fígarós“ eftir Wolfgang Amadeus Mozart við texta Lorenzo da Ponte á einkar vel við þegar ungir söngvarar eru annars vegar, þar sem Mozart gerir kröfu um mikinn aga jafnt raddlega og í túlkun. Brúðkaup Fígarós er ein af frægustu óperum Mozarts. Jóhann Smári hefur áður sett „Brúðkaup Fígarós“ á svið, á Akureyri vorið 1999 þegar hann var þar yfirmaður söng-, óperu- og ljóðadeildar skólans. Sú uppfærsla var í samvinnu við Leikfélag Akureyrar og var einkar vel tekið. Nánari upplýsingar um sýningar á „Brúðkaupi Fígarós“ eru í auglýsingu í blaðinu í dag. Einnig er fjallað um óperuna í Sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld kl. 21:30 á ÍNN og vf.is.

Frá æfingu á Brúðkaupi Fígarós nú í vikunni.

HAFÐU ÞAÐ GOTT Í SUMARFRÍINU Frábær í ferðalagið

SONY

LENOVO

SONY

SONY

BLUETOOTH SRSX2

IDEATAB A7-40

XBASS HEYRNARTÓL

XPERIA E4 GSM SÍMI

Verð 19.990 kr.

Verð 19.900 kr.

Verð 14.990 kr.

Verð 24.990 kr.

Tengdu símann við þennan öfluga hátalara. Fáanleg í þremur flottum litum, svörtu, hvítu og rauðu

Spræk og skemmtileg spjaldtölva. Hentar vel í alla afspilun og leiki. Hulstur og heyrnartól fylgja með

Glæsileg heyrnartól með kraftmiklu hljóði og miklum bassa. Fást í bláu, svörtu, rauðu og hvítu

Góður Android snjallsími á frábæru verði. Með 5” IPS snertiskjá og 5 MP myndavél

HAFNARGATA 40 - S. 422 2200

REYKJANESBÆ


14

fimmtudagur 28. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

Útskriftarhópur vorannar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. VF-mynd/OddgeirKarlsson.

Guðlaug Björt dúx á vorönn í FS

S

jötíu og sex nemendur útskrifuðust á vorönn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Átján ára Njarðvíkurmær, Guðlaug Björt Júlíusdóttir, var dúx skólans en hún útskrifaðist frá náttúrufræðibraut á þremur árum með 9,5 í aðaleinkunn. Af þessum 76 voru 50 stúdentar, 6 sjúkraliðar, 9 brautskráðust af starfsbraut, 9 úr verknámi og 14 luku námi af starfsnámsbrautum. Nokkrir nemendur brautskráðust af tveimur námsbrautum. Konur voru 39 og karlar 37. Alls komu 56 úr Reykjanesbæ, sex úr Grindavík og Sandgerði, fjórir úr Garði, þrír úr Vogum og síðan kom einn úr Hafnarfirði. Dagskrá útskriftarinnar var með hefðbundnu sniði. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Ásta María Jónasdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Guðbjörg Jónatansdóttir kennari flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Aron Freyr Kristjánsson nýstúdent lék á rafgítar ásamt Högna Þorsteinssyni, kennara við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Ásta María Jónasdóttir og Theodór Már Guðmundsson fengu viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda, Alexander Róbertsson fyrir myndlist og Guðni Már Gilbert fyrir forritun. Ingólfur Þór Ævarsson fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í vélstjórnargreinum og hann fékk einnig gjöf frá Isavia fyrir árangur sinn. Ellert Björn Ómarsson fékk viðurkenn-

ingu fyrir störf í þágu nemenda og fyrir góðan árangur í myndlist. Lárus Guðmundsson fékk viðurkenningar fyrir árangur sinn viðskipta- og hagfræði og fyrir góðan árangur í bókfærslu. Bjarki Þór Wium Sveinsson fékk viðurkenningar frá skólanum fyrir góðan árangur í bókfærslu og fyrir frábæran árangur í sálar-og uppeldisfræði og hann fékk einnig verðlaun frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í samfélagsgreinum. Elva Dögg Sigurðardóttir fékk viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda og hún fékk viðurkenningar fyrir góðan árangur í félags-og sálarfræði, spænsku og bókfærslu. Bertmarí Ýr Bergmannsdóttir fékk síðan viðurkenningar fyrir góðan árangur í spænsku, ensku, félagsfræði og myndlist. Guðlaug Björt Júlíusdóttir fékk viðurkenningu frá skólanum fyrir árangur sinn í stærðfræði en hún fékk einnig gjöf frá Íslenska stærðfræðifélaginu fyrir árangur í stærðfræði og sömuleiðis gjöf frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir árangur sinn í stærðfræði. Guðlaug Björt fékk viðurkenningar fyrir góðan árangur í efnafræði, spænsku og íslensku og þá fékk hún verðlaun frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í íslensku Hún fékk gjöf frá Þekkingarsetri Suðurnesja fyrir árangur í raungreinum og verðlaun frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í stærðfræði og raungreinum. Guðlaug Björt hlaut einnig raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík en þau hlýtur sá nemandi sem nær bestum árangri í raungreinum á stúdentsprófi. Guðlaug fékk bók að gjöf en kjósi verðlaunahafi að hefja nám við Háskólann í Reykjavík fær hann auk þess nýnemastyrk og niðurfelld skóla-

gjöld fyrstu önnina í námi. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti 100.000 kr. námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift og hlaut Guðlaug Björt Júlíusdóttir styrkinn. Guðlaug Björt fékk einnig 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi. Við útskriftina veittu foreldrafélag skólans og Reykjanesbær verðlaun fyrir jákvæða framkomu á skemmtunum félagsins í vetur. Það voru þau Lovísa Ýr Andradóttir og Olaf Forberg sem voru dregin úr hópi þeirra nemenda sem uppfylltu skilyrðin fyrir þátttöku en þau fengu bæði spjaldtölvu að gjöf. Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktarsjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita nemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Þau Aníta Lóa Hauksdóttir, Birta María Ómarsdóttir, Magnþór Breki Ragnarsson og Aron Már Guðmundsson fengu öll 20.000 kr. styrk fyrir góða frammistöðu í ræðumennsku og góðan árangur í lífsleikni. Þá fékk nemendafélag skólans 100.000 kr. sem viðurkenningu fyrir öflugt og fjölbreytt félagslíf en það var Ásta María Jónasdóttir nýstúdent og fráfarandi formaður nemendafélagins sem tók við styrknum.

Verðlaunahafar við útskriftina. VF-mynd/OddgeirKarlsson.

Kalka gaf FS eina milljón króna XXVið útskrift vorannar Fjölbrautaskóla Suðurnesja barst skólanum gjöf frá Sorpeyðingarstöð Suðurnesja, gjafabréf upp á eina milljón króna. Birgir Már Bragason stjórnarformaður og Jón Norðfjörð framkvæmdastjóri stöðvarinnar afhentu gjöfina og Kristján Ásmundsson, skólameistari tók við henni. Gjöfina skal nota til tækjakaupa vegna kennslu á náttúrufræðibraut. Tilefnið er 10 ára afmæli Kölku þann 27. maí en í stað veisluhalda ákvað stjórn Sorpeyðingarstöðvarinnar að styrkja kennslu í skólanum með áherslu á náttúruna og umhverfisvernd.


15

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 28. maí 2015

-viðtal

pósturu pket@vf.is

Nýútskrifaður dúx FS stefnir á nám erlendis með kærastanum eftir ár:

Guðlaug Björt sópaði að sér verðlaunum og útskrifaðist með 9,5 í meðaleinkunn og lauk námi á 3 árum. VF-mynd/OddgeirKarlsson.

Var ekki alltaf bara heima að læra

Á

tján ára Njarðvíkurmær, Guðlaug Björt Júlíusdóttir, dúx Fjölbrautaskóla Suðurnesja á vorönn 2015 segir að grundvöllur að góðum árangri sé að vera skipulögð, mæta vel og skila verkefnum á réttum tíma. Ekki sé nóg að vera gáfum gædd ef metnaðinn skortir. Hún ætlar að starfa sem stuðningsfulltrúi í Akurskóla næsta árið og spila körfubolta með Grindavík á meðan kærastinn hennar lýkur námi. Þá er stefnan tekin til útlanda í verkfræðinám. Víkurfréttir tóku Guðlaugu Björt tali og hún var spurð hvernig hún hefði eiginlega farið Guðlaug með fjölskyldu sinni við útskriftina í FS, foreldrarnir eru Ásgerður Þorgeirsdóttir og Júlíus Valgeirsson. VF-mynd/OddgeirKarlsson.

að þessu og hvort ekki sé um einhverjar ofurgáfur að ræða. „Ég held að það sé bara mikill metnaður, skipuleggja sig vel, mæta í alla tíma og skila á réttum tíma. Það skiptir miklu máli. Ég held að ekki þurfi ofurgáfur til. Það geta þetta margir. Þetta snýst um að leggja mikið á sig og gera meira en hinir,“ segir Guðlaug Björt, sem hefur ekki einungis lagt mikla rækt við námið heldur ýmislegt annað líka. „Ég reyni að vinna hlutina aðeins fram í tímann. Og þetta er alveg hægt þótt ég æfi körfubolta og svoleiðis.“

Félagslífið betra með hverju árinu Guðlaug Björt segir grundvöllinn að góðum námsárangri vera að mæta í alla tíma og vera virk í tímum; skrifa niður og hlusta vel. „Og bara leggja allt í sölurnar. Það eru margir með gáfur en metnaðurinn er mikilvæga viðbótin til að ná lengra.“ Nýbakaði dúxinn tók virkan þátt í félagslífi skólans samhliða námi og segir það hafa verið betra með hverju árinu. „Eftirminnilegastir eru sérstöku dagarnir og kvöldin sem haldin voru hér. Böllinn hafa líka verið skemmtileg og félagsskapurinn. Já, ég fór alveg á böll, var ekki alltaf bara heima að læra,“ segir Guðlaug Björt og hlær. Einnig hafi skólinn verið frábær og þar starfi afar skemmtilegir kennarar. Uppáhaldsfögin hafi verið stærðfræði og raungreinar. Verður stuðningsfulltrúi í Akurskóla Guðlaug Björt lauk námi á náttúrufræðibraut á þremur árum vegna þess að hún ætlaði að fara erlendis að spila körfubolta og dreif námið af vegna þess. „En við ætlum að fara út saman, ég og kærastinn, þegar hann er búinn að klára eftir

Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja:

Ungmenni sem ljúka ekki framhaldsskóla verr stödd en áður

K

ristján Ásmundsson, skólameistari Fjölbrauta- var talið hollt og nauðsynlegt að læra áður en það hélt skóla Suðurnesja sagði í ræðu sinni við útskrift út á lífsins braut, hvort heldur var til starfa eða frekara á vorönn að þau ungmenni sem lykju ekki framhalds- náms. Í framtíðinni má gera ráð fyrir að nemendur eigi skóla væru verr stödd en áður. Hann sagði FS endur- þess kost að auka sérhæfinguna velji þeir bóknámsbrautir spegla samfélagið á Suðurnesjum, en 96% nemenda til stúdentsprófs. Ekki er þó meiningin að breyta inntaki eru þaðan. námsins. Það kemur ekki í ljós fyrr en síðar hvort undir„Fjölbrautaskóli Suðurnesja er ekki búningur nemenda reynist nægur einsleitur skóli, við höfum jafnan fyrir krefjandi háskólanám. Námslok kappkostað að taka við öllum, óháð verða sem fyrr sveigjanleg þannig að einkunnum. Allir sitja við sama borð nemendum mun áfram gefast kostur á og við reynum að þjónusta hvern að ráða námshraða sínum í samræmi og einn eftir því sem kostur er. Við við áhuga og getu. Auk þess gefur fjölhöfum alltaf sagt að FS sé góður skóli greinabrautin, en hún er ein af nýju sem bjóði uppá fjölbreytt og gott nám, stúdentsbrautunum, möguleika á að við það viljum við standa.“ setja nám sitt saman miðað við áhugaSkólameistari kom inn á styttingu mál og breytilegar kröfur í undirbúnnámstíma til stúdentsprófs en um það ingi fyrir frekara nám. hefur verið mikið rætt að undanförnu. Það gerir það hins vegar að verkum „Þær stúdentsbrautir sem settar verða að nemendur þurfa að vera sér meðupp eiga að vera þannig að nemvitaðir um að hverju þeir stefna og því endum gefst kostur á að ljúka náminu verða prófin líklega fjölbreyttari að á þremur árum. Það hefur minna farið samsetningu en nú er. Nemendur geta fyrir því í umræðunni að þetta hefur þá jafnframt nýtt starfs-, list- og verkKristján Ásmundsson alltaf verið hægt í áfangakerfinu. Nú námsáfanga inn í þetta kjósi þeir svo. skólameistari FS. eru til að mynda fimm nemendur að Þetta hljómar flókið en tilgangurinn ljúka stúdentsprófi á þremur árum er að auðvelda nemendum að velja og um síðustu áramót lauk meirihluti útskriftarnemenda sér nám með ákveðið markmið í huga hvað varðar bæði okkar stúdentsprófi á þremur og hálfu ári. störf og frekari menntun á viðkomandi sviði. Þeir munu Strax í haust eru fyrirhugaðar miklar skipulagsbreytingar jafnframt eiga þess kost að geta valið milli stuttra námsá stúdentsnámi og á næsta ári fylgja breytingar í starfs- brauta eða lengri allt eftir því hvað hæfir hverjum og námi. Þannig munu gerð og umfang stúdentsprófsins einum. Það er alltaf verið að brýna fyrir ungu fólki í dag breytast en segja má að samsetning þess hafi verið lítt að nota tímann vel og ljúka námi eins og þið hafið gert. Í breytt um langt skeið. Nemendur hafa getað sérhæft sig að ljósi aukinnar áherslu á menntun í samfélaginu eru þau einhverju marki með vali milli námsbrauta en sammerkt ungmenni sem ekki ljúka framhaldsskóla verr stödd nú en þeim öllum er að þar er sitt lítið af hverju sem ungu fólki áður fyrr,“ sagði Kristján.

eitt ár. Og taka kannski eitthvað aukalega á í körfunni líka í sumar. Ég verð í 70% starfi sem stuðningsfulltrúi í Akurskóla næsta vetur og karfan verður því líka tekin á fullu. Vonandi fæ ég einhvern styrk út af körfunni.“ Annars stefnir hún á verkfræðinám, jafnvel í Ameríku. Spurð um mögulegt starf í framtíðinni segist hún hafa gaman að því að kenna öðrum. „En ég gæti hugsað mér að starfa við eitthvað sem tengist stærðfræði og raungreinum. Einnig eitthvað sem tengist verkfræði.“

Mikilvægt að velja skemmtilegt nám Spurð um góð ráð eða leiðsögn til þeirra sem eru að hefja nám í framhaldsskóla segir Guðlaug Björt að mjög mikilvægt sé að velja nám sem sé skemmtilegt. „Auðvitað eru áfangar sem manni finnst ekki skemmtilegir sem þarf að taka en þá er um að gera að velja líka einhverja skemmtilega með. Ekki hugsa um peninga eða svoleiðis þegar maður hugsar um hvað maður ætlar að verða. Maður þarf að vera það alla ævi.“

ATVINNA

Sýslumaðurinn á Suðurnesjum óskar eftir að ráða í stöðu skrifstofumanns. Um er að ræða 100% starf frá 1. júlí nk. Hæfniskröfur:

Góð almenn tölvukunnátta.

Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi ríka þjónustulund, sé talnaglöggur, búi yfir hæfni í mannlegum samskiptum og sé sjálfstæður í vinnubrögðum. Krafist er traustra vinnubragða og stundvísi. Hreint sakavottorð. Starfssvið:

Almenn afgreiðsla, þjónusta og símsvörun, upplýsingagjöf og úrlausn mála.

Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr.70/1996 Nánari upplýsingar um starfið

veitir Halldóra K. Ólafsdóttir skrifstofustjóri. Sími 458-2222 halldora@syslumenn.is Umsóknarfrestur er til 15. júni n.k.

Sýslumaðurinn á Suðurnesjum


16

fimmtudagur 28. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR

GARÐAÚÐUN

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

Úðum gegn: Roðamaur, kóngulóm og fl. Björn, 822 3577 · 699 5571 · 421 5571

-

smáauglýsingar TIL SÖLU

Lítil 2.herbergja íbúð í Njarðvík til sölu gegn yfirtöku. Afborganir af lánum kr. 57.297 á mánuði. Áhugasamir hafið samband: iceaxis@ gmail.com

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla

NÝTT

Forvarnir með næringu

Opið alla daga fram á kvöld

STAPAFELL

Hafnargötu 50, Keflavík Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

Verið velkomin

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00

www.vf.is

1 5 - 1 1 6 5 - H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A

Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

Fisktækniskólinn Í Grindavík útskrifar á sínu fimmta starfsári:

Tíu fisktæknar útskrifuðust

T

íu nemendur útskrifuðust sem fisktæknar frá Fisktækniskóla Íslands en útskrift fór fram 22. maí sl. Fisktækniskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám í sjávarútvegi á framhaldsskólastigi. Námið er hagnýtt tveggja ára nám sem byggt er upp þannig að önnur hver önn er í skóla og hin á vinnustað. Nemendur geta valið sér námsleiðir í sjómennsku, fiskvinnslu og fiskeldi. Verkefni og vinnustaðir eru valdir með hlið-

sjón af áhuga hvers og eins. Í fiskvinnslulínu læra nemendur um meðferð fisks, gæðakerfi, um vélar (t.d. Baader, Marel), tæki og búnað sem notaður er til að hámarka gæði og verðmæti fisks. Námið gefur möguleika á fjölbreyttum atvinnutækifærum í vaxandi sjávarútvegi. Í sjómennskulínu læra nemendur m.a. vélavörslu, aflameðferð, veiðitækni, sjóvinnu og rekstur. Námið er tilvalið fyrir þá sem stefna á strandveiði eða huga að öðrum störfum á sjó. Í fiskeldislínu sér-

hæfa nemendur sig til almennra starfa í fiskeldi eða búa sig undir frekara nám hérlendis eða við samstarfsskóla Fisktækniskólans m.a. í Noregi. Þeir sem að útskrifuðust í þetta sinn voru: Elmar Þór Pétursson, Gylfi Sigurðsson, Ólafur Ólafsson, Birkir Mar Harðarson, Guðrún Sigríður Jónsdóttir, Íris Ebba Ajayi Óskarsdóttir, Þröstur Þór Sigurðsson, Victor Ingvi Jacobsen, Haraldur Örn Haraldsson og Anton Númi Magnússon.

Viltu þjóna flugi með okkur? Óskað er eftir öflugu fólki til að bætast í kraftmikinn hóp starfmanna Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Leitað er að sveigjanlegum og úrræðagóðum einstaklingum sem búa yfir lipurri og þægilegri framkomu og getu til að vinna undir álagi.

Verkefnastjóri

Þróun og skipulag þjálfunarmála

Starfið felst í stýringu umbótaverkefna í rekstri, fjárfestingum, ferlagreiningu og áætlanagerð. Samskipti við notendur flugvallarins ásamt skipulagningu og umsýslu verkefna sem tengjast rekstri þeirra er jafnframt stór hluti starfsins.

Starfið felst í þróun og skipulagi þjálfunarmála, uppbyggingu námsefnis, samskiptum við stjórnendur sem og aðkomu að framkvæmd námskeiða.

Umsóknum skal skilað inn á rafrænu formi á www.isavia/atvinna.

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí.

Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 940 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru umsjón með uppbyggingu og rekstri flugvalla og að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem millilandaflug, auk yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.


17

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 28. maí 2015

ÞJÁLFARAHORNIÐ // HELGI RAFN GUÐMUNDSSON

Kodd’að leika!

Nú er sumarið komið og með hækkandi sólu koma ýmsir fylgifiskar í æfingaflórunni okkar. Almenningur setur kuldabomsurnar aftast í skápinn og dustar rykið af hlaupaskónum og reiðhjólinu, nú skal sko tekið á því! Líkamsræktarstöðvarnar eru með sumartilboð og íþróttafélögin bjóða uppá sumarnámskeið fyrir krakkana. Þegar kemur að sumartímanum þá hef ég alltaf haft þá reglu að æfa betur en á veturna. Það er enginn skóli, vinnutíminn öðruvísi, meiri gleði og jákvæðni í löngum og fallegum dögum og svo er miklu auðveldara að vakna þegar sólin, birtan og hlýjan tekur á móti manni. Annað sem fylgir lóunni góðu á vorin eru útilieikirnir. Maður tekur eftir því að það eru í raun krakkar í hverfinu þegar þau fara að leika sér á leikvöllunum sem maður hélt stundum að væru nútíma listaverk. Það eru ótal leikir sem eru til og nú fyrir skömmu stóð Guðmundur

Stefán Gunnarsson fyrir stofnun „Út að leika” - hópum á facebook þar sem fólk getur komið sér saman og farið í skemmtilega leiki. Einnig er heimasíðan leikjavefurinn.is með fullt af skemmtilegum leikjum sem fullorðna fólkið getur kennt börnunum. Vinur minn sagði mér um daginn að á sumrin á pakki hann inn leikjatölvunni og setji hana inn í geymslu; það er ekki í boði fyrir krakkana að spila tölvuleiki á sumrin. Sumarið er útitími og hreyfitími fyrir krakkana og það er nóg í boði í flórunni á Suðurnesjunum. Síðustu 8 ár hef ég verið með námskeið fyrir krakka á öllum aldri og við höfum haft útivist, leiki og hollt mataræði í fyrirrúmi, þetta er gífurlega skemmtilegt og gefandi námskeið.

Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,

Annað sem er einkenni góðs sumars eru lyktin af nýslegnu grasi og grillmat. Þetta sumar er frábært tækifæri til að rúlla gamla grillinu út og búa til einhverjar nýjar dýrindis máltiðir úr hollu hráefni eins og lax eða maríneruðu nautakjöti með kartöflum og...ég er kominn með vatn í munninn, farinn út að grilla!

Bergþór Ingi Inguson (Ingi Þór) Bogabraut 5, Sandgerði,

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 23. maí. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði, þriðjudaginn 2. júní kl: 14:00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans er bent á styrktarreikning, Kt: 181181-5089 banki: 114-05-060582. Halla Rós Eiríksdóttir og börn.

Helgi Rafn Guðmundsson

Íþróttafræðingur Yfirþjálfari taekwondo deildar Keflavíkur Superform þjálfari í Sporthúsinu

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma

Pálína Ágústsdóttir,

Brúnavegi 13, Reykjavík, lést laugardaginn 23. maí síðast liðinn. Útför hennar fer fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 1. júní kl. 15:00.

Vikulegur magasínþáttur frá Suðurnesjum - alltaf eitthvað nýtt í hverri viku!

ÁSBRÚ SKAPAR NÝJA EFTIRSPURN BRÚÐKAUP FÍGARÓS DÚXINN Í FS

Ágúst Þór Sigurðsson, Berta Gerður Guðmundsdóttir, Garðar Snorri Guðmundsson, Kjartan Páll Guðmundsson, Harpa Rós Guðmundsdóttir, Snædís Guðmundsdóttir, Sólveig Lilja Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.

Matthildur Aðalsteinsdóttir, Fanney Petra Ómarsdóttir, María Ólöf Sigurðardóttir, Sigurbergur Theodórsson, Sigurður Karlsson, Kristján Berg Ásgeirsson,

... já, það er alltaf eitthvað í þætti vikunnar!

Sjónvarp Víkurfrétta

nslög yfir 700 in Þú finnur rétta á YouTube Víkurf Sjónvarps

á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30 – og í HD á vf.is þegar þér hentar!

Smáskipavélavörður - vélgæsla

ATVINNA Laust starf í Íþróttamiðstöð Sandgerðis Sandgerðisbær auglýsir 100% stöðu við Íþróttamiðstöð Sandgerðis. Í starfinu felst m.a. klefavarsla í karlaklefum. Um er að ræða framtíðarstarf. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 1. júní 2015. Nánari upplýsingar um starfið eru á heimasíðu Sandgerðisbæjar, www.sandgerdi.is og í síma 420-7500.

Nám í skóla – nám á vinnustað

Fisktækniskóli Íslands býður upp á nám í vélaverði

námið veitir réttindi til að vera vélavörður á skipi með 750 kW vél og minni og 12 m og styttra að skráningarlengd. Um er að ræða bóklegt og verklegt nám. Verklegi þátturinn felst í almennri vélstjórn og bilanagreiningu og skal tilsvara 16 kennslustundum. Farið verður í álagskeyrslu véla, dísilvélina + kerfi, forhleðslu, rafmagn, eldsneyti + kerfi, afgas + kerfi, varahluti og vetrargeymslu, reglur, kælikerfi (freon!), vökvakerfi og frágang véla.

Áætlað er að byrja föstudaginn 12 júní kl 09:00 Kennsla fer fram á eftirfarandi dögum: Laugardaginn 13. júní kl 09:00-17:00 Sunnudaginn 14. júní kl 09:00-17:00 Mánudaginn 15. júní kl 09:00-17:00 þriðjudaginn 16. júní kl 09:00-17:00 Nánari upplýsingar hjá starfsmönnum Fisktækniskóla Íslands í síma 412-5966 eða senda skráningu á eydna@fiskt.is www.fiskt.is

Víkurbraut 56 240 Grindavík, info@fiskt.is


18

fimmtudagur 28. maí 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-íþróttir

Keflvíkingar í eyðimerkurgöngu P

Björgvin Sigmundsson endaði jafn í 28. sæti á Eimskipsmótaröðinni í Leiru.

Versta byrjun liðsins í sögu 10 og 12 liða deildar á Íslandsmóti

epsideildarlið Keflavíkur í knattspyrnuy tapaði enn einum leiknum sl. mánudag þegar liðið beið lægri hlut gegn Fylki á Nettóvellinum, 1-3. Spilamennska heimamanna var afar döpur í leiknum og úrslitin sanngjörn. Keflvíkingar hafa ekki unnið leik það sem af er Íslandsmóti og ríkir nokkuð krísuástand á liðinu þar sem erfiðlega gengur að skapa sér marktækifæri og halda boltanum innan liðsins. Þá hefur markvörður liðsins, Richard Arends, átt heldur erfiða byrjun á sumrinu og átt stóran þátt í nokkrum mörkum sem liðið hefur fengið á sig. Byrjun mótsins er sú versta hjá Keflvíkingum í 10 eða 12 liða deild Íslandsmóts, en t.a.m. var liðið með 2 stig eftir 5 umferðir árið 1996 og hafnaði þá í 8. sæti deildarinnar. „Þetta var mjög vond frammistaða hjá okkur, alveg frá upphafi leiksins. Við gerum mörg glórulaus mistök. Það er ekki í lagi að Keflavíkurliðið spili svona á heimavelli og ég veit ekkert um mína stöðu. Stjórn knattspyrnudeildarinnar tekur alltaf þær ákvarðanir sem hún telur besta fyrir liðið sitt,” sagði Kristján Guðmundsson í viðtali við

Eimskipsmótaröðin opnaði á Hólmsvelli í Leiru:

UNGU KYLFINGAR GS STÓÐU SIG VEL

F

fotbolti.net eftir leikinn aðspurður um frammistöðuna og stöðu hans sem þjálfara eftir þessa byrjun á mótinu. „Það er ekki bjóðandi fólki að koma og horfa á okkur gera svona rækilega í buxurnar. Við erum að leita að skýringu á þessu sjálfir en það er af nægu að taka hjá okkur. Það virðast vera fullt af punktum sem við getum farið í að lagfæra.

Menn töluðu um að byrja tímabilið í þessum leik en það gerðist ekki,“ sagði Guðjón Árni Antoníusson leikmaður liðsins súr í bragði eftir leik. Keflvíkingar sitja í 11. sæti deildarinnar með 1 stig og mæta KR í Frostaskjóli á sunnudaginn en liðin mætast í tvígang með stuttu millibili þar sem liðin drógust saman í Borgunarbikarnum.

yrsta mót ársins á Eimskipsmótaröðinni í golfi fór fram á Hólmsvelli í Leiru um síðustu helgi. Völlurinn fékk lof keppenda enda í góðu standi þrátt fyrir erfiða tíð í vor. Sigurvegarar voru þau Andri Þór Björnsson og Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Karen Guðnadóttir úr GS sem nýlega var valin til að leika fyrir Íslands hönd á Smáþjóðaleikunum náði sér ekki alveg á strik í mótin og endaði í 5. sæti. Í karlaflokki var Björgvin Sigmundsson í 28. sæti. Því miður er dauft yfir keppniskylfingum Golfklúbbs Suðurnesja um þessar mundir. Yngri kylfingarnir stóðu sig betur á Íslandsbankamótaröðinni sem

fram fór á Akranesi. Kinga Korpak sigraði í flokki 14 ára og yngri telpna og systir hennar Zuzanna varð í 3. sæti í 15-16 ára. Þá lenti Birkir Orri Viðarsson í 3. sæti í flokki 15-16 ára pilta. Kristján Jökull Marinósson tók annan sigur fyrir GS en hann vann í flokki -14 ára á Áskorendamótaröðinni sem var leikin á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysuströnd. Þá er ógetið frábærs golfhrings hjá Sigurði Jónssyni sem sigraði á þmóti í Leirunni sl. þriðjudag. Siggi „súper“ lék 18 holurnar á 5 undri pari og fékk fugl á 7 af síðustu 10 brautum vallarins. Það er mjög fátítt!

Ragnheiður Sara keppir á Evrópuleikunum um helgina

Ekkert annað í stöðunni en að komast á heimsleikana

U

m helgina fara hinir árlegu Evrópuleikar í Crossfit fram í Ballerup Super Arena í Kaupmannahöfn. Mótið er áframhald undankeppni heimsleikana sem fara munu fram í Kaliforníu seinna í sumar, þar sem aðeins þeir allra bestu í greininni vinna sér inn keppnisrétt hverju sinni. Nokkuð fjölmennur hópur íslenskra áhorfenda er á leiðinni til Kaupmannahafnar á mótið, þar af iðkendur hjá Crossfit Suðurnes sem ætla sér að styðja við bakið á Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur. Hún er talin ein af sigurstranglegustu konunum af spekingum vestanhafs þar sem greinin á rætur sínar að rekja. Sara, eins og hún er oftast kölluð, hefur verið við topp heimslistans í vetur og unnið nokkur sterk mót þar sem að fyrrum heimsleikameistarar hafa þurft að lúta í lægra haldi fyrir henni. Aðeins 5 efstu konurnar á mótinu vinna sér inn keppnisrétt á heimsleikunum. Sara gaf sér tíma til að svara nokkrum spurningum blaðamanns áður en hún hélt utan.

Hvernig hefur undirbúningi verið háttað þessa síðustu mánuði fyrir mót? Mjög stífar æfingar 2x á dag og mjög mikilvægt að taka æfingar með einhverjum sem ýtir mér áfram. Einnig mjög mikilvægt að hugsa vel um líkamann, hreint mataræði gott endurheimt (e. recovery), fer t.a.m. mjög oft í ísbaðið í sundlauginni í Keflavík milli æfinga. Þú ert búin að klífa upp metorðastiga Crossfit heimsins í allan vetur og er svo komið núna að sjónvarpsþættir tileinkaðir greininni nefna þig stíft á nafn sem keppanda til að hafa augun á um

helgina. Finnurðu fyrir aukinni pressu nú þegar þú hefur skapað þér nafn og ert á barmi þess að komast á heimsleikana eða er þetta allt saman olía á eldinn þinn? Já, það er smá aukin pressa á mér núna, sem mun vonandi bara hjálpa mér. En mér finnst best að hugsa sem minnst um þessa pressu og gera mitt allra besta. Markmiðið mitt á Regionals er að klára keppnina og geta hugsað: ég gerði mitt allra besta og það er ekki hægt að biðja um neitt meira en það. Þú landaðir nýlega samningi við NIKE, eitt stærsta íþróttamerki heims. Hvernig hljómar sá samningur og hvaða þýðingu hefur hann fyrir þig?

Við erum bara 2 stelpur og nokkrir strákar sem erum með þennan samning hjá Nike, þannig þetta er er mjög mikill heiður fyrir mig að vera önnur stelpan. Ég hef alltaf verið Nike manneskja og sagði við vin minn þegar ég byrjaði að æfa og var að kaupa æfingaföt að einn daginn verður mynd af mer á Nike auglýsingu í gríni, þannig það er hægt að segja að þetta sé hálfgerður draumur að rætast. Nú ertu að þjálfa hjá Crossfit Suðurnes milli þess sem að þú æfir yfir daginn. Hvernig er stemninginn á meðal iðkenda þar fyrir helginni? Finnurðu fyrir miklum meðbyr frá fólki í kringum þig? Ég fæ ómetanlegan stuðning frá þeim og væri ekki komin á þennan stað ef það væri ekki fyrir þau og ótrúlegt hvað það eru margir sem hafa trú á mér. Svo til að toppa allan þennan stuðning þá eru um 30 manns að koma út til Kaupmannahafnar um helgina til þess að horfa á mig og styðja mig. Að lokum, mun Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir komast inn á heimsleikana í ár? Það er ekkert annað í stöðunni en að komast! Sporthúsið ætlar að sýna beint frá mótinu á 2. hæð hússins þar sem léttar veitingar verða í boði en aðeins verður sýnt frá keppni í kvennaflokki. Fyrsta grein fer fram á föstudag kl. 11:10. Nánari upplýsingar um tímasetningar á keppnisgreinum má finna á vef Víkurfrétta og í Sporthúsinu. Ítarlegra viðtal við Ragnheiði Söru verður einnig að finna á vef Víkurfrétta í fyrramálið.

Neðrideildar boltinn:

Fyrstu stig Grindvíkinga -Njarðvík í ágætum málum XXGrindvíkingar sóttu sín fyrstu stig í 1. deild karla er liðið lagði Gróttu 2-0 í Grindavík í síðustu umferð. Grindvíkingar eru í 8. sæti deildarinnar með 3 stig og sækja Selfyssinga heim annað kvöld kl. 19:15. Njarðvíkingar töpuðu sínum fyrstu stigum í 2. deild karla með 1-1 jafntefli við Dalvík/Reynir. Njarðvíkingar sitja í 4. sæti deildarinnar með 7 stig og mæta Aftureldingu á Njarðtaksvellinum annað kvöld kl. 19:15. Í 3. deildinni eru Reynismenn í 4. sæti eftir stórsigur á Berserkjum 1-6. Liðið mætir Magna á N1 vellinum á laugardag kl. 16 þar sem aðgangur er ókeypis í tilefni 80 ára afmælis félagsins. Þá eru Víðismenn í 7. sæti deildarinnar eftir 1-1 jafntefli við Einherja á mánudag þar sem að Tómas Pálmason jafnaði úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Þróttur Vogum fer vel af stað í 4. deild karla en liðið rótburstaði Örninn 7-1 á Vogabæjarvelli í 1. umferð. Þróttarar mæta Stál-Úlfi í kvöld á gervigrasinu við Kórinn í Kópavogi í 2. umferð mótsins.


19

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 28. maí 2015

pósturu siddi@vf.is

100%

Gama ópera n

Wolfgang Amadeus Mozart

Brúðkaup Fígarós Lorenzo da Ponte

Leikstjóri/tónlistarstjóri: Jóhann Smári Sævarsson Píanóleikari: Kristján Karl Bragason Fluttir verða I og IV þáttur óperunnar

Í Hljómahöll 29.5, 30.5, 3.6 og 4.6 kl. 20:00

Miðasala á hljomaholl.is

420 4000 studlaberg.is

Sólvallagata 30 – 230 Keflavík

Suðurvellir 1 – 230 Keflavík

14.900.000,-

36.400.000,-

2ja-3ja 83m2 íbúð á neðri hæð í tvíbýli. Eignin hefur sérinngang, innkeyrslan hellulögð. Stutt er í skóla og ýmsa þjónustu t.d sjúkrahús.

Faxabraut 27 – 230 Keflavík

6 herbergja 176.5m2 einbýlishús. Bílskúrinn er ca 41m2 og hefur gryfju. Eignin hefur nánast öll verið endurnýjuð.

Guðlaugur H. Guðlaugsson Löggiltur fasteignasali

Erlutjörn 6 – 260 Njarðvík

6 herbergja 225m2 einbýlishús. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð. Skóli og leikskóli í göngufær.

Tilboð óskast

95.5m2 4ja herbergja íbúð á 4. hæð. Gert er ráð fyrir þvottavél inná baði og eldhúsi. Mikið útsýni er frá íbúðinni.

3ja herbergja 156m2 íbúð á þriðju hæð. Í kjallara er 27,6m2 geymsla ásamt 40m2 opnu svæði. Sér bílastæði er í kjallara og frábært útsýni úr íbúð.

Hafnargata 23 – 230 Keflavík

Stráskógarbyggð – 311 Borgarbyggð 4ja herbergja 52m2 sumarhús. Lóðarleiga ca 90 þús per ár. Stofnar fyrir rafmagn og vatn eru að lóðarmörkum.

13.900.000,-

21.000.000,-

7.000.000

Halldór Magnússon Löggiltur fasteignasali

Haraldur Freyr Guðmundsson Sölumaður

Vesturgata 15a – 230 Keflavík

110m2 3ja herbergja íbúð með bílskúr. Geymsla í kjallar ca 6 fm og bílskúr ca 23m2. Eignin er á fyrstu hæð í fjórbýli.

20.500.000,-

Suðurvellir 5 – 230 Keflavík

5 herbergja 196m2 einbýlishús. Bílskúrinn er ca 54m2, einnig er góður geymsluskúr á lóð. Baðherbergi og eldhús er nýlega endurnýjað.

38.000.000,-

Stuðlaberg - Hafnargata 20 - 230 Reykjanesbæ - Sími 420 4000 - www.studlaberg.is


vf.is

FIMMTUDAGUR 28. MAÍ • 21. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR

VIKAN Á VEFNUM Guðlaugur H. Sigurjónsson Eftir rúmlega 39 þús skref, rétt tæpa 40 km, hækkun um 2,1 km og göngu frá kl. 05-18:20...get ég tjékkað Hvannadalshnjúk af "bucket listanum" damn hvað ég á þennan skilið.

-mundi Það er ekki bara skorið niður í Reykjanesbæ - Nú er líka byrjað að skera upp!

SÍMADAGAR Í OMNIS Windows Phone sérfræðingur verður á staðnum milli kl. 12.00 og 18.00 Windows phone námskeið fylgir seldum símum.

28-29 MAÍ

NOKIA LUMIA 830

NOKIA LUMIA 635 - 1.2 GHz Quad-core örgjörvi - 512 MB vinnsluminni - 4,5” IPS LCD skjár - 5 MP myndavél - Gorilla glass - 4G

- 1.2 GHz Quad-core örgjörvi - 1 GB vinnsluminni - 5,0” IPS LCD skjár - 10 MP myndavél - Háskerpu myndavél með LED flassi - 830 þráðlaus hleðsla - Gorilla glass - 4G

Aðeins 24.990 kr.

Aðeins 64.990 kr.

Kristín Júlla Kristjánsdóttir Blendnar tilfinningar í dag, 18 ár síðan Júlli pabbi dó aðeins 49 ára og frumsýning á Hrútum í kvöld, það verður stuð.

Gauti Dagbjartsson Jæja heimur !! Þá er plemmuhnoðrinn, súpergellan og fjallageitin Irmý Rós Þorsteinsdóttir orðin 44 ára gömul. Hún er semsagt jafngömul mér og flestir virðast vera á því að hún beri aldurinn betur en ég.....sem ég er sammála. Við erum búin að bauka núna saman í 23 ár og höfum aldrei rifist !! OK, það er lygi en ég elska hana samt. Við höfum nokkrum sinnum rifist en alltaf útaf einhverju rugli í henni ! líka lýgi. En hvað um það......til hamingju með daginn elsku Irmý mín. Þú ert algjört toppeintak og ég hlakka til að vesenast með þér áfram inní hvaða þá vitleysu sem kann að verða á vegi okkar. Takk fyrir að vera til og njóttu dagsins.....lof jú long tæm

r #vikurfretti

Frábært í sumarbústaðinn

Frábært í hjólhýsið

DANTEX 22”

UNITED 32”

SJÓNVARP MEÐ DVD Verð 49.990 kr.

Dantax 22” HD Led Sjónvarp með DVD Upplausn 1920x1080p punktar - Innbyggður DVD - Nicam Stereo Hljóðkerfi 12v/220v Stafrænn móttakari DVB-T/C T2

SJÓNVARP Verð 44.990 kr.

United 32” LED Sjónvarp - Upplausn 1366x768 punktar Stafrænn móttakari DVB-T/T2 - Nicam Stereo Hljóðkerfi - Multimedia USB tengi - Spilar: DivX, MKV, MP3 og JPEG Birt með fyrirvara um prentvillur og vöruframboð - Símatilboðin gilda einungis dagana 28-29 maí.

Jón Björn Ólafsson Undanfarið hef ég staðið við eldhúsgluggann vopnaður þessum tveimur vinum mínum; harðfiskur og smjörvi. Í um 70 gr af harðfiski leynist sá dagskammtur skilst mér af próteini sem talinn er æskilegur. Við Íslendingar borðum um það bil 200 tonn af harðfiski á ári, sem er allnokkuð. En á sama tíma borðum við 6.000 tonn af sælgæti og flytjum inn 13.000 tonn af sykri sá ég einhverstaðar ritað á netinu. Tölfræði er ágæt...harðfiskur er betri...hugsaði ég með mér síðast er ég stóð við eldhúsgluggann og lét hugann reika.

Roadstar Retro

Frábært í sumarbústaðinn

20%

afsláttur

UNITED 40” SJÓNVARP Verð 69.990 kr.

United 40” LED Sjónvarp Full HD 1920x1080 punktar - Progressive Scan - Stafrænn móttakari DVB-T2+C - Nicam Stereo Hljóðkerfi - Multimedia USB tengi -Spilar: DivX, MKV, MP3 og JPEG

HAFNARGATA 40 - S. 422 2200

REYKJANESBÆ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
21 tbl 2015 by Víkurfréttir ehf - Issuu