Skip to main content

21 tbl 2016

Page 1

• fimmtudagurinn 26. maí 2016 • 21. tölublað • 37. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Aukin flugumferð yfir byggð í Reykjanesbæ í sumar ●●Norður-suður flugbraut á Keflavíkurflugvelli verður endurnýjuð í sumar Nú í sumar verður norður-suður flugbraut á Keflavíkurflugvelli endurnýjuð. Á meðan framkvæmdir standa yfir mun umferð flugvallarins að mestu leyti fara um austur-vestur flugbrautina. Íbúar í grennd við aðflugslínu austur-vestur flugbrautarinnar gætu því orðið varir við aukna flugumferð yfir sín hverfi. Nýlega hefur Isavia yfirfarið alla flugferla í kringum Keflavíkurflugvöll og gert sérstakar breytingar á þeim sem miða að því að draga eins og kostur er úr hljóðmengun í íbúabyggð í nágrenni flugvallarins. Sumarið 2017 verður austur-vestur brautin svo endurnýjuð og þá mun megnið af flugumferðinni fara um norður-suður brautina. Norður-suður brautin er sú braut sem er mest notuð að jafnaði, meðal annars vegna þess að flugumferð um hana skapar minna ónæði í íbúabyggð. Íbúar í Reykjanesbæ munu einnig taka meira eftir herflugvélum í sumar

og haust en til dæmis verður norski flugherinn við loftrýmisgæslu NATO í júní og tékkneski flugherinn í október. Reynt verður eins og kostur er að skipuleggja flug herflugvéla sem dvelja hér á landi við loftrýmisgæslu og önnur verkefni, utan annatíma flugvallarins það er á tímabilinu milli klukkan 09:00 og 15:00. Stóraukin umsvif á Keflavíkurflugvelli hafa vart farið framhjá landsmönnum og taka íbúar Suðurnesja ekki síst eftir því. Farþegafjöldi um flugvöllinn hefur aukist hratt síðustu árin og flugferðunum hefur fjölgað í takt. Samhliða þessu hefur beinum störfum á flugvellinum snarfjölgað ár hvert en gert er ráð fyrir að samtals um 5000 manns hafi haft atvinnu á flugvellinum á síðasta ári og að þeir fari yfir 6500 á þessu ári. Þá eru ótalin þau óbeinu áhrif sem aukin umsvif hafa haft á atvinnu- og efnahagslífið á Suðurnesjum og landinu öllu.

Skoraði fjögur mörk á 15 mínútum n Hin 14 ára Sveindís Jane Jónsdóttir gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk í bikarleik gegn Álftanesi á dögunum. Það gerði hún á aðeins 15 mínutum eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Hún er á sínu öðru ári í meistaraflokki Keflavíkur og þykir mikið efni. // 18

Fyrsti farmur af hráefni fyrir kísilver United Silicon er kominn til Helguvíkur. Flutningaskip kom með rúm 5000 tonn af kvarsi sl. mánudag. Uppskipun hófst á mánudagskvöld og lauk í gærkvöldi. Kvars er steinefni sem er flutt hingað frá Spáni og verður brætt og unnið í kísilverinu síðar í sumar. Myndin var tekin í gær þegar smágrafa var hífð um borð í flutningaskipið til að ýta saman síðustu tonnunum af kvarsinu í lest skipsins.

Jákvæðari tónn í lífeyrissjóðunum ●●Samningaviðræður Reykjanesbæjar við kröfuhafa að taka nýja stefnu? Bréf frá lífeyrissjóðum sem eru kröfuhafar Reykjanesbær og taka átti fyrir á bæjarráðsfundi í morgun greinir frá jákvæðum tón þeirra í samningaviðræðum við Reykjanesbæ. Líkurnar á því að bæjarfélagið sé að fara undir fjárhaldsstjórn hafa því minnkað. Í bréfinu er greint frá því að vilji sé fyrir því að halda viðræðum áfram en samkvæmt heimildum Víkurfrétta er unnið með ákveðna lausn á skuldum Reykjanesbæjar við lífeyrissjóðina. Hún nemur 1,7 milljarði króna en hingað til hafa lífeyrissjóðirnir verið tregir við að afskrifa upphæðina og einungis ljáð máls á því að lengja í lánunum. Forráðamenn Reykjanesbæjar hafa ekki verið tilbúnir til þess því nauðsynlegt sé að lækka skuldirnar. Lenging í þeim sé ekki lausn.

Framkvæmdagleði á Suðurnesjum

FÍTON / SÍA

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

nefndarinnar. Ráðuneytið samþykkti það og veitti frest til 7. júní. Þá er næsti bæjarstjórnarfundur. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta hafa viðræður við lífeyrissjóðina staðið yfir á bak við tjöldin. Bréfið frá lífeyrissjóðunum sem lagt var fram í bæjarráði Reykjanesbæjar í morgun mun líklega verða lykill að því að viðræður munu halda áfram með meiri von um að árangur náist og að samningaviðræðum geti lokið á næstunni. Það mun ekki síður vera mikilvægt fyrir lífeyrissjóðina að klára málið áður en það færi í fjárhaldsstjórn því veð þeirra munu ekki öll vera mjög traust. Greint verður áfram frá málinu á vf.is eftir fund bæjarráðs í dag, fimmtudag.

SJÓNVARP

n Samkvæmt iðnaðarmönnum og söluaðilium í byggingarvöruverslunum eru framkvæmdir með mesta móti á Suðurnesjum um þessar mundir og hafa vaxið gríðarlega síðasta rúma árið. Stórar framkvæmdir eru í fullum gangi á Ásbrú, í Flugstöðinni, í Helguvík, við Bláa Lónið og víðar. Einstaklingar eru duglegir við að lappa upp á eignir sínar enda er mikil hreyfing á fasteignamarkaði eins og greint hefur verið frá undanfarið. Bílaleigur og gistiheimili spretta upp víða á svæðinu og eru iðnaðarmenn önnum kafnir við að sinna öllum þessum verkefnum hjá smærri fyrirtækjum sem og einstaklingum. Víkurfréttir tóku púlsinn á nokkrum aðilum sem koma að þessum framkvæmdum öllum. // 10-11

einföld reiknivél á ebox.is

Talið er líklegt að aðrir kröfuhafar sem þegar hafa samþykkt niðurfellingu á hluta skuldanna, séu jákvæðir fyrir þessari lausn. Þannig verði hægt að ljúka málinu á næstu vikum, gangi þessi hugmynd eftir. Fram hefur komið að allir kröfuhafar þurfi að samþykkja niðurfellingu til að hún nái í gegn. Lífeyrissjóðirnir hafa hingað til ekki gefið grænt ljós. VF greindi frá því fyrr í vikunni að Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga teldi ekki hjá því komist að leggja til við innanríkisráðherra að Reykjanesbæ verði skipuð fjárhaldsstjórn. Reykjanesbær óskaði eftir fresti til að koma á framfæri athugasemdum eða frekari upplýsingum áður en endanleg ákvörðun yrði tekin um það hvort bæjarfélagið skilaði lyklunum til

V Í K U R F R É T TA

NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

WWW.VF.IS/VEFTV SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!


2

VÍKURFRÉTTIR

LAUS STÖRF Skólaliðar. Myllubakkaskóli óskar eftir skólaliðum til starfa næsta skólaár. Umsóknarfrestur er til 8. júní nk. en ráðið í stöðurnar frá 15. ágúst 2016. Upplýsingar veitir Bryndís Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 420-1450/ 897-4252 eða netfangið bryndis.b.gudmundsdottir@myllubakkaskoli.is Sálfræðingur. Fræðslusvið óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa hjá sérfræðiþjónustu við skóla. Umsóknarfrestur er til og með 12. júní 2016. Nánari upplýsingar um starfið veitir Einar Trausti Einarsson, yfirsálfræðingur, einar.t.einarsson@reykjanesbaer.is. Deildarstjóri. Heiðarskóli óskar eftir að ráða deildarstjóra elda stigs til starfa næsta skólaár. Umsóknarfrestur er til og með 9. júní en ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2016. Upplýsingar veitir Haraldur Axel Einarsson skólastjóri í síma 420-4500/698-7862 eða netfangið haraldur.a. einarsson@heidarskoli.is og Bryndís Jóna Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 420-4500/868-4906 eða netfangið bryndis.j.magnusdottir@heidarskoli.is. Umsóknum í ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf, þar sem einnig er að finna menntunar- og hæfniskröfur til umsækjenda og nánari upplýsingar um störfin.

UMSÓKN UM FRÍSTUNDASKÓLA SKÓLAÁRIÐ 2016-2017

fimmtudagur 26. maí 2016

Ekki lengur mesta atvinnuleysið á Suðurnesjum ●●Mikil umsvif á Keflavíkurflugvelli hafa skipt sköpum fyrir atvinnuleitendur Í fyrsta sinn í áraraðir mælist atvinnuleysi á Suðurnesjum ekki það mesta á landinu. Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar var atvinnuleysi á Suðurnesjum í apríl 2,6 prósent. Atvinnuleysi á landinu öllu í apríl var 2,5 prósent og var mest á höfuðborgarsvæðinu, 2,7 prósent. Minnst er atvinnuleysið á Norðurlandi vestra, e ð a 1 , 4 pró s e nt . Síðan í september 2006 hefur atvinnuleysi á Suðurnesjum mælst hæst á landsÍris vísu. Mest var það Guðmundsá Su ð u r ne sju m í dóttir, forstöðufebrúar 2010 þegar maður Vinnumála stofnunar á Suður það mældist 15 prónesjum. sent. Að sögn Írisar Guðmundsdóttur, forstöðumanns Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum, eru þetta ánægjuleg tíðindi. Frá janúarlokum 2016 hefur atvinnuleitendum á Suðurnesjum fækkað um 28 prósent og hefur mest fækkun orðið í yngsta aldurshópnum, 18 til 24 ára. Á Suðurnesjum voru 336 einstaklingar á skrá hjá Vinnumálastofnun í mars

2016 en hafði fækkað í 301 í apríl. Nú í dag eru 270 á skrá. Til samanburðar voru 536 atvinnuleitendur á skrá hjá Vinnumálastofnun á Suðurnesjum í apríl í fyrra. Íris segir vaxandi umsvif í ferðaþjónustu hafa haft mikið að segja. „Það eru aukin umsvif á Keflavíkurflugvelli og afleidd störf. Við finnum fyrir miklum uppgangi á svæðinu og mörg störf í miðlun berast okkur,“ segir hún. Þá

Hagnaður HS Orku á fyrsta ársfjórðungi nær hálfur milljarður

Foreldrum grunnskólabarna í 1. – 4. bekk, sem ætla að nýta sér frístundaskóla næsta vetur, er bent á að sækja um frístundavistun í síðasta lagi 31. maí 2016. Hægt er að sækja um á Mitt Reykjanes eða á skrifstofum skólanna.

SUMARLESTUR

Loftrýmisgæsla NATO við Ísland að hefjast ●●Koma með fjórar F-16 orrustuþotur til landsins Sumarlestur hefst miðvikudaginn 1. júní. Skráningarblöðum þarf að skila í afgreiðslu bókasafnsins. Allir sem taka þátt geta unnið skemmtileg lestrarverðlaun. Dregið verður út annan hvern föstudag í allt sumar. Allar nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn og á facebook síðu safnsins: facebook.com/BokasafnReykjanesbaejar

SKÓLASLIT OG NÝJAR UMSÓKNIR Skólaslit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða í Stapa, Hljómahöll, í dag, fimmtudaginn 26. maí kl. 18.00. Tónlistaratriði, afhending áfangaprófsskírteina og vitnisburðarblaða. Hvatningarverðlaun Íslandsbanka afhent nýjum handhafa. Allir velkomnir. Umsóknir fyrir nýja nemendur skólaárið 2016-2017 eru á vef skólans tonlistarskoli.reykjanesbaer.is eða á vef Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is Skólastjóri

bendir Íris á að lögð hafi verið mikil áhersla á virkni einstaklinga í atvinnuleit, bæði með ráðgjöf og atvinnutengdum úrræðum og að það hafi skilað sér. Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja, tekur í sama streng, og bendir á að nú fái margir vinnu við sumarafleysingar á Keflavíkurflugvelli. „Það hjálpar mikið til og við erum í tiltölulega góðum málum.“

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst mánudaginn 30. maí og þá kemur flugsveit norska flughersins til landsins. Alls munu um 70 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem í Þýskalandi. Flugsveitin kemur með fjórar F-16 orrustuþotur til landsins.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki fyrir lok júní. Það er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

■■Hagnaður HS Orku hf. á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var 465 milljónir, samanborið við 321 milljóna tap á sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur námu 1.863 milljónum en voru á sama tíma í fyrra 2.076 milljónir. Á vef HS Orku kemur fram að helsta skýringin á lækkun rekstrartekna sé lækkun álverðs og minni sala rafmagns til fiskimjölsverksmiðja vegna lakrar loðnuvertíðar. Stjórn HS Orku hf. samþykkti árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrsta ársfjórðung ársins á fundi sínum þann 11. maí síðastliðinn.

Bar og borgari í gamla bankanum í Njarðvík Kebab á Hafnargötu

DO YOU LOVE CLEANING? AÞ-Þrif is looking for people to work at the airport, both for daytime work and shift work Punctual and efficient individual, between the age of 20–40 years old with driving license and no criminal record. Must speak english and/or icelandic. Challenging work in a multicultural environment. If you are interested, please apply via www.ath-thrif.is or email: gerda@ath-thrif.is

PROFESSIONALISM GOOD SERVICE HONESTY

■■Talsvert að gistihúsum er að rísa á Suðurnesjum í takt við vaxandi straum ferðamanna á svæðinu. Það á einnig við um veitingastaði en tveir nýir slíkir munu opna á næstunni í Reykjanesbæ. Fyrirhugað er að opna kebab stað við Hafnargötu 17 þar sem Olsen Olsen var áður til húsa. Til stendur að opna staðinn innan skamms samkvæmt heimildum Víkurfrétta. Margir hafa eflaust tekið eftir miklum framkvæmdum á Grundarvegi 23 í Njarðvík þar sem Njarðvíkurútibú Sparisjóðsins í Keflavík var áður til húsa. Þar stendur til að opna gistiheimili á öllum þremur hæðunum. Á neðstu hæðinni þar sem áður var afgreiðsla í bankanum, mun opna bar og veitingastaður. Þar á meðal annars að bjóða upp á úrvals hamborgara ásamt fleiri veitingum. Gistiheimilið opnar fljótlega en barinn síðar í sumar.


Barnadagskrá á Sjóaranum síkáta í Grindavík Verið hjartanlega velkomin á Sjóarann síkáta í Grindavík sjómannadagshelgina 3.-5. júní 2016. Barnadagskráin er í boði Landsbankans og er hún fjölbreytt og skemmtileg að vanda.

Dagskrá  Sirkus Ísland

 Brúðubíllinn

 Gulli og Felix

 Paintball og Laser tag

 Siggi sæti og Goggi mega

 Vatnaboltar

 Lína langsokkur

 Go-kart

 Villi og Gói

 Dorgveiðikeppni

 Einar Mikael töframaður

 Skemmtisigling

 Píla pína

 Fiskasafn með lifandi sjávardýrum

 Íþróttaálfurinn og Solla stirða

í fiskabúrum

 Spin Kick hópurinn

 Sjópulsa í höfninni

 Bjössi bolla og Bjarni töframaður

 Krakkakeyrsla á mótorhjólum

 Leiktæki og hoppukastalar

 Andlitsmálning og margt fleira

Landsbanka-Sproti kemur fram sunnudaginn 5. júní.

n

álfurin

Íþrótta

Dagskrá Sjóarans síkáta og allar nánari upplýsingar eru á www.sjoarinnsikati.is

num.

r á stað

a verðu

stirð og Solla

Sproti mætir hr

ess að vanda.


markhönnun ehf

KJÖTBORÐ

Verðsprengja

-50%

GRÍSARIF

499 ÁÐUR 998 KR/KG

-30%

-25%

-

-29%

LAMBA PRIME M. HVÍTLAUK OG RÓSMARÍN

KRYDDUÐ HELGARSTEIK

3.149

1.949

ÁÐUR 4.498 KR/KG

ÁÐUR 2.598 KR/KG

-22%

SVIÐ FROSIÐ

397

ÁÐUR 559 KR/KG

-20% LAMBAHRYGGUR FROSINN

NETTÓ KJÚKLINGUR HEILL

1.778

679

ÁÐUR 2.279 KR/KG

ÁÐUR 849 KR/KG

-72%

-30%

-25% KINDAKÆFA GAMLA GÓÐA

JÓGÚRTBRAUÐ - 550 G

MEGGLE SPRAUTURJÓMI

349

79

ÁÐUR 359 KR/PK

ÁÐUR 498 KR/STK

ÁÐUR 289 KR/STK

269

Tilboðin gilda 26. – 29. maí 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


KRYDDAÐUR GRÍSAHNAKKI ÚRB.

-40%

1.499 ÁÐUR 2.498 KR/KG

-30%

-30% LAMBALÆRI KRYDDAÐ

KALKÚNA GRILLSNEIÐAR - POKI

1.662

1.928

ÁÐUR 2.374 KR/KG

ÁÐUR 2.754 KR/KG

LÍFRÆNN

242

-30%

KR/PK

LÍFRÆNN

242 KR/PK

PFANNER BIO SAFAR 2 TEG

PFANNER SAFAR 6 TEG

BAKE OFF VÍNARBRAUÐ PECAN

224

139

ÁÐUR 269 KR/STK

ÁÐUR 249 KR/STK

ÁÐUR 199 KR/STK

242

-30%

-41% NICE'N EASY PIZZA - 2 TEG

PAPRIKUVEISLA ALLIR LITIR

259

-30%

ÁÐUR 439 KR/STK

AFSLÁTTUR

www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss


6

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 26. maí 2016

SAUTJÁN ÁRA

RITSTJÓRNARPISTILL Páll Ketilsson

SKRÝTNIR TÍMAR? Það eru svolítið skrýtnir tímar á Suðurnesjum um þessar mundir. Atvinnulífið á fleygiferð og angan af góðæri í loftinu. Fyrirtæki á svæðinu í miklum vexti og sum þeirra, jafnvel lítið þekkt, komin með fleiri starfsmenn en áætlað var að álver myndi hafa. Svo ofan í þetta allt þurfa forráðamenn Reykjanesbæjar að standa í erfiðum viðræðum við kröfuhafa um skuldavanda bæjarfélagsins. Svolítið öfugsnúið miðað við stöðuna á svæðinu. En miðað við nýjustu fréttir þá eru góðar líkur á því að samningaviðræður séu á réttri leið fyrir Reykjanesbæ en lífeyrissjóðirnir hafa sent bæjaryfirvöldum bréf þess efnis að þeir vilji skoða möguleika til að klára málið. Sem sagt, allt á réttri leið þrátt fyrir fréttir á aðra leið fyrr í vikunni. Það þarf ekki að orðlengja það frekar hversu alvarlegt það væri ef fjárhaldsstjórn yrði skipuð yfir bænum. Það væri algert rothögg og í algerri þversögn við það sem er í gangi. En að jákvæðu hlutunum aftur. Í blaðinu er ítarleg umfjöllun um gang mála í framkvæmdum víða á svæðinu. Suðurnesjamenn eru framkvæmdaglaðir núna. Það er sama hvar er stigið niður, hjá iðnaðarmönnum, verslunum og fleirum, að ógleymdri flugstöðinni. Alls staðar er vaðandi sveifla. Það vantar starfsfólk mjög víða, sérstaklega hjá iðnaðarmönnum en einnig hjá mörgum þjónustufyrirtækjum. Aðilar í byggingaverktöku og verslun segja það áberandi hvað margir eru að flytja til Suðurnesja, íbúar frá öðrum stöðum að komast í stærri eignir og setja það ekki fyrir sér að keyra til vinnu eftir Reykjanesbrautinni. Þá eru einstaklingar einnig framkvæmdaglaðari. Þeir eru að betrumbæta og laga húseignir sínar. Vitað er um marga sem hafa keypt íbúðir til útleigu. Í vikunni var svo fyrsta uppskipun á hráefni fyrir kísilver United Silicon. Það eru tímamót. VF hefur heyrt af áhuga skipafélaganna á að nýta höfnina enn betur, ekki síst í tengslum við mikla starfsemi á Keflavíkurflugvelli. Í blaðinu birtum við viðtal við eiganda Airport Associates og segjum frá starfsemi þess, fyrirtæki sem byrjaði sem lítill þjónustuaðili við flugfélögin fyrir átján árum síðan en er nú orðið eitt af stærstu fyrirtækjum á Suðurnesjum. Fjöldi starfsmanna þess fer yfir 500 í sumar og mun verða yfir 400 næsta vetur. Fyrirtækið hefur ekki verið mjög áberandi í samfélaginu en saga þess er merkileg og það eru stórar áætlanir í farvatninu, með stækkun húsnæðis og aukinni starfsemi. Þegar verið var að ræða um álver í Helguvík var horft til þess að starfsmannafjöldi þess hefði orðið á milli 400 og 500 manns. Það er með nokkrum ólíkindum að félag í þjónustu við flugfélög sé komið með meiri fjölda starfsmanna. Félagið þurfti að bregðast við með því að flytja inn starfsfólk frá útlöndum og keypti tvö fjölbýlishús á Ásbrú til að hýsa á annað hundrað nýja starfsmenn. Frá þessu er greint í viðtalinu en einnig var fjallað um fyrirtækið í þætti Sjónvarps VF frá því í síðustu viku.

ÚTBOÐ

STÚDENT ●●Ætlar að verða stærðfræðikennari ●●Veit varla hvað hún á af sér að gera þegar frí er í skólanum

Aþena Eir Jónsdóttir er aðeins 17 ára gömul og útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja um síðustu helgi. Meðaleinkunn hennar var 8,85 og við útskriftina fékk hún verðlaun fyrir góðan árangur í viðskiptagreinum og félagsfræði. Það er þó engin tilviljun að Aþenu hafi tekist að útskrifast svo ung og með góðar einkunnir því henni finnst mjög gaman í skóla og veit varla hvað hún á af sér að gera þegar hún er ekki í skólanum. „Það er þannig þó svo að það sé nóg að gera hjá mér. Það verður skrítið í sumar vera ekki í neinum skóla,“ segir Aþena sem vinnur í sumar á Hertz bílaleigunni. Útskriftinni fagnaði Aþena með góðu partýi og fór í mars í útskriftarferðalag með kærastanum, Lárusi Guðmundssyni, til Tenerife, Hollands og Þýskalands. Sleppti 8. bekk

Grunnskólagöngunni lauk Aþena 15 ára úr Gerðaskóla í Garði en hún sleppti 8. bekk og var því ári á undan jafnöldrunum. Hún stundaði nám við FS í þrjú ár og verður 18 ára í sumar. Þegar hún hóf nám við FS var í boði hraðferðarlína fyrir nemendur sem vildu klára námið á þremur árum. Sú lína er ekki lengur í boði því stúdentsnám almennt er orðið þriggja ára nám. Aþena kveðst eiga auðvelt með að læra og því hafi námið ekki verið strembið. „Eina önnina tók ég 27 einingar en það var ekkert erfitt, ég náði þessu einhvern veginn. Eitt sumarið tók ég svo tvo áfanga svo að ég var með fáar einingar og gat tekið því rólega síðasta árið,“ segir hún. Eins og áður sagði fékk Aþena verðlaun fyrir góðan árangur í viðskiptagreinum og félagsfræði og segir hún þær greinar hafa verið mjög skemmtilegar. „Ég fór nú aðallega í félagsfræði því mér finnst

kennarinn, hann Bogi Ragnarsson, svo skemmtilegur að ég ákvað að taka áfanga hjá honum.“

Stærðfræðin í uppáhaldi

Í haust ætlar Aþena að hefja kennaranám við Háskóla Íslands og er stefnan tekin á að verða stærðfræðikennari í framtíðinni. Stærðfræðin hefur lengi verið uppáhalds fag Aþenu og í FS lauk hún 24 einingum í stærðfræði þó svo að hún þyrfti aðeins að ljúka 15 einingum. Aþena ætlar að búa áfram á Suðurnesjum og keyra til Reykjavíkur í skólann með kærastanum sem er líka að hefja háskólanám í haust. Aþena hefur ekki aðeins verið að sinna náminu undanfarin ár því hún hefur líka verið að æfa og kenna dans hjá Danskompaníi ásamt því að vera í hestamennsku. Fjölskylda Aþenu á 20 hesta og yfir sumarið keppir Aþena í hesta- íþróttum svo það er sjaldan auð stund hjá þessum orkumikla dugnaðarforki.

Aþena Eir á útskriftardaginn með systur sinni, Írisi Rut Jónsdóttur.

Grindvíski sjóarinn verður sífellt kátari

Reykjanesbær, óskar eftir tilboðum í verkið Fráveita leidd úr Helguvíkurhöfn 2016 Verkið felst í uppgreftri, klapparvinnu, söndun, lagningu holræsa, þverun brimvarnargarðs og frágangsvinnu ýmiskonar. Verk þetta skal unnið frá 15. júní 2016 til 1. október 2016 Helstu magntölur eru eftirfarandi: Skurðgröftur 327m Sjóvarnargarður fjarlægður 1.285m³ Fleygun á klöpp 256 m Fylling í skurði 327 m Sjóvarnargarður endurgerður 1.285 m² Fráveitulagnir Ø600 395 m Steyptar sökkur í sjó 10 stk Útboðsgögn verða afhend á geisladisk á skrifstofu Verkfræðistofu Suðurnesja, Víkurbraut 13, 230 Reykjanesbæ, frá og með föstudeginum 27. maí 2016 Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 7. Júní 2016, kl. 11:00.

●●Bæjarhátíðin til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans ●●20 ára afmælishátíð Sjómannadagshátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík stækkar ár frá ári á sama tíma og víða annars staðar er dregið úr hátíðahöldum. Hátíðin hefur jafnframt færst úr því að vera hefðbundin sjómannadagshátíð yfir í fjölskylduhátíð og síðustu árin með aukinni almennri þátttöku bæjarbúa, auk fjölda gesta. Um 25 þúsund manns voru á hátíðinni í fyrra. Aðalhátíðisdagarnir eru föstudagur til sunnudags en dagskráin byrjar þó mun fyrr. Um 100 atriði eru á dagskránni en hátíðin fagnar 20 ára afmæli í ár og Sjómanna- og vélstjórafélagið 60 ára afmæli. „Sjóarinn síkáti er bæjarhátíð okkar Grindavíkinga sem við leggjum mikinn metnað í. Dagskráin hefur aldrei verið glæsilegri en í ár, hér er hin eina og sanna Sjómannadagshelgi með öllu tilheyrandi. Ég vil taka skýrt fram að þetta er fyrst og fremst fjölskylduhátíð enda er barnadagskráin í öndvegi hjá okkur. Við leggjum metnað í umgjörðina þar sem Björgunarsveitin Þorbjörn gegnir lykilhlutverki, hér er ströng gæsla og 20 ára aldurstakmark á tjaldsvæðinu,“ segir Þorsteinn

og koma saman til að grilla. Þá eru fjórar skrúðgöngur úr hverfunum sem sameinast í miðbænum svo hersingin er æði skrautleg þegar farið er síðasta spölinn að hátíðarsvæðinu við Kvikuna. Þar er bryggjuball þar sem nokkrir af helstu skemmtikröftum landsins troða upp, eins og Páll Óskar, Jón Jónsson, Friðrik Dór, Ellert úr The Voice, Ingó Veðurguð og fleiri.

Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar um bæjarhátíðina Sjóarann síkáta sem haldin verður í Grindavík helgina 3. til 5. júní næstkomandi. Grindvíkingar skreyta göturnar og hverfin fyrir hátíðina og hefur myndast skemmtileg stemmning í kringum það. Íbúar gatnanna gleðjast yfir skreytingunum síðdegis á föstudaginn

Mikið er um að vera á laugardeginum og á sunnudeginum bætast við hefðbundnari atriði sjómannadagsins. „Við megum ekki gleyma þeim þætti, þetta er sjómanna- og fjölskylduhátíð. Við erum stolt af því að búa í sjávarútvegsbæ og viljum með þessu heiðra sjómennina sem halda þessu landi okkar á floti, líkt og áður,“ segir Þorsteinn. Dagskrá Sjóarans síkáta má finna á www.sjoarinnsikati.is. Henni verður jafnframt dreift í öll hús á Suðurnesjum í Víkurfréttum í næstu viku. Þá er dagskrána að finna í nýja GrindavíkurAppinu.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.


1Ís0len0sk%t

1y0 lsur

4stk

Pylsa + brauð

P

70

80 g

ungnautakjöt

579 kr. 2x140 g

598

kr/stk.

kr. 4x80 g

549

359 kr. pk.

169

Bónus Vínarpylsur 485 g,10 stk.

Bónus Pylsubrauð 260 g, 5 stk.

kr. 2x120 g

Íslandsnaut Ungnautaborgarar 2x140 g, 2x120 g eða 4x80 g

kr. pk.

SPARAÐU MEÐ BÓNUS 5 stker. oni

5 stkn.da

Beikon bó Pylsur

Chilli Pepp Pylsur

279 kr. 770 g

998 kr. pk.

kr. 200 g

95

259

Bónus Heilkornabrauð 770 g

Stjörnugrís Grillpylsur 10 stk. í pakka, 900 g

ES Steiktur Laukur 200 g

Hunt’s Tómatsósa 680 g

NÝBAKAÐ!

kr. 680 g

rykkuurs Orkuldsy kurla Líka ti

259 kr. 4 stk.

219 kr. pk.

198 kr. pk.

kr. 500 ml

98

kr. 250 ml

Bónus Kringlur 4 stk.

Polarbrauð 6 stk. í pakka

Bónus Samlokuskinka, 237 g

Appelsín, Pepsi, Pepsi Max, 500 ml

ES Orkudrykkur 250 ml, 2 teg.

129 kr. stk.

298

Koop Bjórglas 400 ml

Koop Íþróttabrúsi Með sigti, 600 ml

kr. stk.

2.798 kr. 270 g

59

Amino Energy Fæðubótarefni 270 g

Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 29. maí eða meðan birgðir endast


8

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 26. maí 2016

Margar hendur vinna létt verk

Stofnfundur vináttufélags Baldurs KE á sjómannadaginn Stofnfundur vináttufélags m.b. Baldurs KE 97 frá Keflavík verður haldinn á Víkinni, Krossmóa 4 á fjórðu hæð á sjómannadaginn 5. júní næstkomandi klukkan 13. Báturinn, sem á stóran sess í sjávarútvegssögu Reykjanesbæjar, var afhentur Byggðasafni Reykjanesbæjar til eignar í lok sjómannamessu í fyrra af þáverandi eiganda hans, Ólafi Björnssyni, fyrrverandi útgerðarmanni en Ólafur lést tveimur mánuðum síðar. Ólafur vildi að báturinn gegndi áfram hlutverki sínu í landi og fannst kominn tími til að gefa Byggðasafninu hann en báturinn hefur staðið hefur í nausti í Grófinni rétt við smábátahöfnina í Keflavík síðan árið 2003. Baldur KE 97 var fyrsti frambyggði báturinn samkvæmt íslenskum hug-

myndum og fyrstur með skuttog á Íslandi. Ólafur segir að hann hafi snemma fengið þá flugu í hausinn að láta smíða frambyggðan bát með skuttog. „Ég var stýrimaður á togaranum Júní og Andrés Gunnarsson vélstjóri gerði líkan og tillögur að skuttogara, en á þessum tíma var nýsköpunin í gangi. Það vildi enginn hlusta á hann hér heima, en hann fór sem farþegi með okkur á Júní til Grimsby. Við gengum frá þessu listaverki á káetuborðinu og ég sat langtímum saman og horfði á þetta listaverk,“ sagði Ólafur í viðtali við Víkurfréttir árið 2003 þegar báturinn var fluttur á núverandi stað og upplýstur. Baldur KE var síðustu árin í eigu Nesfisks í Garði en var lagt þann 1. mars 2003 eftir að hafa gegnt sínu hlutverki rækilega í 42 ár.

Reykjanesbær er nokkuð fjölmennur bær með rétt tæplega 15.500 íbúa og víðfeðmur eða alls um 14.400 hektarar að stærð. Því er tæplega einn hektari landsvæðis, eða sem samsvarar um einum fótboltavelli, á hvern íbúa. Það er því um mikið svæði að fara. Bæirnir sem sameinuðust í Reykjanesbæ árið 1994 voru sjávarbæir til forna og strandbæir í þeirri merkingu að byggð liggur að sjó í Keflavík, Njarðvík og Höfnum. Ég man þá tíð þegar það þótti ekkert tiltökumál að hendast upp í jarðýtu og ýta því sem fyrir Guðlaugur H. var í sjó fram enda Sigurjónsson var strandlengjan hér Sviðsstjóri ein sú ljótasta á landUmhverfissviðs inu og þótt víða væri leitað. Strandlengjan hefur tekið algjörum stakkaskiptum með frábærri gönguleið og nú þarf að fara að vinna í umhverfismálum í lóðum sem liggja að henni. Hér hefur í gegnum tíðina verið blómlegur atvinnurekstur í grónum hverfum og uppbygging hröð í nýjum hverfum fyrir hrun. Fasteignir, bæði einstaklinga og fyrirtækja, skipta um eigendur ótt og títt. Farið er af stað með byggingaframkvæmdir sem svo stöðvast af einhverjum ástæðum. Við þannig aðstæður kann það að gleymast að huga að umhverfismálum. Drasl sem „erfist“ milli eigenda er oft drasl sem gleymist. Víða um bæinn má finna lóðir sem þyrfti að fara í tiltekt á og einnig eru opin svæði bæjarins sem taka þyrfti á í þeim málum. Þetta er mikið verkefni og meira en svo að sveitarfélagið eitt og sér geti séð um að klára það verk. Það var því mjög ánægjulegt þegar fulltrúar íbúasamtaka í Innri-Njarðvík komu á tal við okkur á umhverfissviði og óskuðu eftir aðstoð við tiltektardag í Innri-Njarðvík laugardaginn 28.

maí. Íbúar höfðu eftir umræður á Facebook komið sér saman um að skipta öllu hverfinu í minni einingar og ætla að ganga um og tína upp og henda því sem má farga. Við munum setja upp gámastöðvar og útvega ruslapoka og greiða sorpeyðingargjaldið á því sem fargað verður. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem við fáum aðstoð frá íbúum eða samtökum. Aðalstjórn Keflavíkur hefur haldið umhverfisdag árlega í nokkur ár og farið í hreinsunarátak um íþróttasvæði og fasteignir í þeirra umsjá og þá má nefna Bláa Herinn sem hefur verið óþreytandi við að hreinsa strendur bæjarins og sjávarborð. Vafalaust hafa fleiri komið að slíku þótt þeir séu ekki nefndir hér. Þá barst okkur á Umhverfissviði erindi frá íbúasamtökum við Baugholtsróló svokallaðan, sem er í mikilli niðurníðslu, og vilja taka það svæði í fóstur. Þeirra hugmynd er að teikna upp og setja upp leiksvæði, sparkvelli og gróður. Það er lítið mál að verða við slíku þegar samstaða er hjá íbúum og var þetta erindi samþykkt á síðasta

fundi Umhverfis- og skipulagsráðs. Fagnaði ráðið frumkvæði íbúanna enda ríkur vilji til þess koma til móts við íbúahópa sem sameinast um uppbyggingu, fegrun eða endurnýjun opinna svæða innan bæjamarkanna. Það er mjög auðvelt að benda á það sem betur má fara, hvar pottur er brotinn og hvar bæjarfélagið er ekki að standa sig. Það er mjög gott og við fögnum öllum slíkum ábendingum. Lifandi umræður á Facebook, ábendingar til okkar í tölvupósti eða bara í samtali eru mjög af hinu góða. En því ber sérstaklega að fagna þegar íbúar, íbúasamtök og/ eða fyrirtæki bjóða fram aðstoð sína því margar hendur vinna létt verk og saman getum við gert bæinn okkar hreinan og fallegan. Að lokum langar mig til að vitna í frægan forseta og gera hans orð að mínum. Ekki spyrja hvað Reykjanesbær getur gert fyrir þig heldur hvað þú getur gert fyrir Reykjanesbæ. Guðlaugur H. Sigurjónsson Sviðsstjóri Umhverfissviðs

FIMM SNJÖLL ÖPP JÓHÖNNU:

Tónlist nauðsynleg til að rífa sig í gang Jóhanna Júlía Júlíusdóttir var á dögunum krýnd

sem hraustasta kona landsins, þegar hún vann sigur á þrekmótaröðinni. Hún er efnileg í sportinu og stundar crossfit af kappi. Líkamsræktin á vel við Jóhönnu en hún náði frábærum árangri í sundi og Skólahreysti á sínum yngri árum. Þau öpp sem hún notast hvað mest við eru því nokkuð tengd líkamsræktinni. Jóhanna, sem er tvítug, er nýútskrifaður stúdent úr FS og ætlar að vinna við innritun hjá IGS í sumar.

Wodify

BÍLALEIGA ÓSKAR EFTIR STARFSKRAFTI Bílaleiga með starfstöð á Keflavíkurflugvelli óskar eftir að ráða starfsmann í bílaþvott. Umsóknarfrestur er til 2. júní nk. Áhugasamir vinsamlega sendið umsókn ásamt ferilskrá á netfangið go@goiceland.com.

Wodify er eitt af uppáhalds öppunum mínum. Þetta er app sem crossfitarar nota til að sjá æfingarnar og skoða árangurinn sinn. Inn á þessu sé ég æfingar dagsins sem þjálfararnir setja inn á hverjum degi. Ég get skoðað niðurstöður hjá öllum sem æfa í Crossfit Suðurnes og get ,,like-að’’ allan árangurinn. Það er mjög gaman að skoða aftur í tímann og sjá hvað maður hefur bætt sig, maður fær alltaf stjörnu í kerfinu ef maður bætir sig.

Spotify

Spotify þarf nú varla að kynna fyrir neinum en það er eitt af mínum uppáhalds öppum vegna þess að þegar æfingarnar verða erfiðari þá er nauðsynlegt að hafa góða tónlist til að rífa sig áfram. Æfingarnar yrðu mun erfiðari ef það væri aldrei nein tónlist, þá er maður líklegur til að fara pæla í einhverju allt öðru heldur en æfingunni sjálfri.

Endomondo

Endomondo er eins og GPS tæki fyrir hlaupara. Þar getur þú fylgst með hlaupaleiðinni sem þú hleypur og hversu löng hún er, hversu hratt þú hleypur, bæði þá meðalhraða og hraðasta tempóið. Öll hlaup sem þú hleypur geturðu átt í símanum og skoðað aftur í tím-

ann. Þetta er algjör snilld fyrir þá sem hafa gaman af hreyfingu, þú getur notað þetta hvort sem þú ferð að hlaupa, hjóla eða bara í göngutúr.

Íslandsbanki

Íslandsbanka-appið er mjög þægilegt þegar maður er ekki alltaf heima hjá sér og kemst ekki í tölvu. Ég nota það til að fylgjast með stöðunni á reikningunum mínum og ef ég þarf að millifæra á einhvern.

My fitness pal

My fitness pal er algjör snilld ef þú ert að hugsa um mataræðið og vilt fylgjast með hvort þú sért ekki að fá réttu næringuna og í réttum hlutföllum yfir daginn. Ég kynntist þessu forriti fyrst þegar ég fór í næringarfræði í skólanum hjá henni Kiddý og hef notað þetta síðan.


MESTA LÆKKUN OG STÆRSTA

FARTÖLVURÝMING Í SÖGU TÖLVULISTANS Í REYKJANESBÆ ! 60 GERÐIR - 20% MEÐALAFSLÁTTUR -42%

-21%

34.995

54.995

ÁÐUR 59.995

ÁÐUR 69.995

TOS-C50B1CE

TOS-C40C10K

-22%

-17%

-17%

74.995 ÁÐUR 89.995

ACE-NXMZUED021 TOS-C55DC16H

74.995 9.995 ÁÐUR 8

69.995 ÁÐUR 89.995

TOS-C50DB157

-20%

-25%

59.995 ÁÐUR 79.995

TOS-C50B1CF

ACE-NXG7AED009

119.995 5 ÁÐUR 149.99

G I Þ R A T N A V ? U V L Ö T R A F

HAFNARGATA 90 · REYKJANESBÆ · SÍMI 414-1740 · WWW.TL.IS


10

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 26. maí 2016

FRAMKVÆMDAGLEÐI SUÐURNESJAMANNA ●●Tæpum 100 lóðum útdeilt í Reykjanesbæ l Söluaðilar og iðnaðarmenn finna fyrir gríðarlegum vexti í framkvæmdum á svæðinu lEinkaaðilar duglegir við að framkvæma

Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá Suðurnesjamönnum að víða er verið að framkvæma og byggja upp um þessar mundir. Stórar framkvæmdir eru í fullum gangi á Ásbrú, í Flugstöðinni, í Helguvík, við Bláa Lónið og víðar. Einstaklingar eru svo líka duglegir við að lappa upp á eignir sínar enda er mikil hreyfing á fasteignamarkaði eins og greint hefur verið frá undanfarið í Víkurfréttum. Bílaleigur og gistiheimili spretta upp víða á svæðinu og eru iðnaðarmenn önnum kafnir við að sinna öllum þessum verkefnum hjá smærri fyrirtækjum sem og einstaklingum. Víkurfréttir tóku púlsinn á nokkrum aðilum sem koma að þessum framkvæmdum öllum.

Einar Lárus Ragnarsson, verslunarstjóri Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ.

Finnur fyrir gífurlegum framkvæmdum ■■Einar Lárus Ragnarsson, verslunarstjóri Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ, segist finna gífurlega mikið fyrir þessum framkvæmdum. „Ég hef orðið var við það að mikið af fólki er að flytjast hingað sem vinnur ekkert endilega á svæðinu,“ segir Einar sem er duglegur að spjalla við viðskiptavinina í búðinni. „Það er mikið um það að fólk er að flytjast hingað úr smærri íbúðum á höfuðborgarsvæðinu og stækka þá við sig. Fólk er síður að setja það fyrir sig að keyra brautina, sýnist mér.“ Einstaklingar eru að sögn Einars afkastamiklir í alls kyns framkvæmdum um öll Suðurnesin. Auk þeirra framkvæmda sem taldar hafi verið hér að ofan þá er einnig mikið um að vera í Grindavík á vegum sjávarútvegsfyrirtækjanna þar sem mikið af húsnæði hefur verið tekið í gegn fyrir þeirra starfsfólk. Einar segir að hann hafi þurft að bæta við starfsfólki vegna aukinna umsvifa en verslunin fór í gegnum miklar breytingar eftir að Blómaval fór út á sínum tíma. Nú snýst allt um framkvæmdahlutann en nóg er um að vera á þeim vígstöðum um þessar mundir.

Íris Sigtryggsdóttir, verslunarstjóri Byko, segist finna fyrir töluverðri aukningu í framkvæmdum á svæðinu.

Einstaklingar að framkvæma meira ■■Íris Sigtryggsdóttir, verslunarstjóri Byko, segist finna fyrir töluverðri aukningu í framkvæmdum á svæðinu. Því fylgi auðvitað aukin eftirspurn eftir vörum í verslun Byko í Reykjanesbæ. „Það er talsverð breyting frá fyrri árum,“ segir Íris. Hún segir ennfremur að í fyrra og í ár hafi verið mikill stígandi í þessu. Nú er svo komið að einstaklingar eru að taka við sér og framkvæma meira. „Það má segja að það hafi verið lægð í einstaklingsframkvæmdum. Við erum að sjá töluverða aukningu í því að fólk sé að taka húsin sín í gegn og ráðast í stærri framkvæmdir og viðhalda sínum eignum.“ Viðskiptavinum hjá versluninni hefur fjölgað undanfarið sem og starfsfólki. „Við erum með flottan meðbyr og erum ánægð með það. Við erum eftir fremsta megni að verða við aukinni eftirspurn. Við erum með reynslumikið fólk sem er með mikla þekkingu,“ bætir verslunarstjórinn við. „Það eru gríðarlegar framkvæmdir á Suðurnesjum. Í Helguvík, hótelið við Bláa Lónið og í allri flugstöðinni. Þetta er af svo mörgum toga. Ásbrú virðist vera komin á mikið flug. Við erum að sjá verulegar framkvæmdir þar sem við kannski áttum ekki von á. Það er líklega stærra en fólk gerir sér grein fyrir.“


fimmtudagur 26. maí 2016

11

VÍKURFRÉTTIR

Mikil aukning milli ára

Á annað hundrað íbúða úthlutað á svæðinu í ár og í fyrra

Bogi Sigurbjörn Kristjánsson, verslunarstjóri í Múrbúðinni, tekur í sama streng og Íris. „Það er margföld aukning hjá okkur á milli ára. Við erum að tvöfalda aprílmánuð frá því í fyrra og maí lofar ansi góðu eins og staðan ef núna,“ segir Bogi. Hann segir að áður fyrr hafi einstaklingar sótt mikið í verslunina en nú hefur það færst gríðarlega í aukana að fyrirtæki versli við Múrbúðina. „Maður tekur sérstaklega eftir því eftir að hlutirnir fóru af stað í Helguvík og auknar framkvæmdir í Flugstöðinni,“ enda er verslunin vel staðsett hvað varðar þessa vinnustaði. „Ég upplifi þetta þannig að fólk virðist hafa meira á milli handanna. Fólk virðist aðeins spá minna í því hvað hlutirnir kosta miðað við kannski fyrir tveimur, þremur árum. Fólk virðist vera í þeim hugleiðingum að rífa út úr húsunum og græja hlutina upp á nýtt,“ segir Bogi sem sjálfur er í talsverðum framkvæmdum „Mér finnst allir iðnaðarmenn vera meira og minna uppbókaðir, það er sama hvernig á það er litið. Sjálfur er ég að taka húsið mitt í gegn. Mér gengur djöfullega að fá iðnaðarmenn til að aðstoða mig,“ segir hann léttur í bragði.

Bogi Sigurbjörn Kristjánsson, verslunarstjóri í Múrbúðinni,

Mannahallæri í málningunni ■■Það virðist standa heima að iðnaðarmenn eru að drukkna í verkefnum um þessar mundir. Trausti Már Hafsteinsson málari hefur í nógu að snúast um þessar mundir en hann rekur fyrirtækið Kef-málun. Hann segir það vissulega vera ánægjulegt að nóg sé að gera, en þó sé erfitt að fá fólk til vinnu. „Það getur verið erfitt að fá vana menn í málninguna,“ segir Trausti. Að hans sögn voru ansi margir málarar starfandi á svæðinu síðast þegar uppsveifla var í samfélaginu. Eftir að lægðin kom í efnahagslífið þá drógu margir saman seglin og því er komin þörf á endurnýjun í greinina. Trausti telur að miðað við það magn verkefna sem er framundan þá séu varla nægilega margir málarar á svæðinu til þess að anna þeim. „Við erum ekki mörg málningafyrirtæki hérna á Suðurnesjum. Menn sem ég hef talað við segja það sama, að það sé bara mannahallæri.“ Kollegar hans í málningunni hafa einnig nóg að gera og menn glíma jafnvel við það lúxusvandamál að þurfa að neita verkefnum. „Það er nóg að gera hjá öllum og gott betur. Það er orðið fínt ástand þegar menn geta leyft sér að neita verkefnum,“ bætir Trausti við. Hann segist finna fyrir því að einstaklingar séu að framkvæma töluvert. Fasteignamarkaðurinn er á mikilli hreyfingu og þegar fólk kaupir ný hús þá þarf oft að fríska upp á fasteignina. Trausti segir annasamt sumar framundan enda hafi sumarið í fyrra verið slæmt hvað veður varðar og því hafi einhver verk tafist Bjarki Fjeldsted Trausti Már Hafsteinsson málarar. hjá fólki.

■■Víkurfréttir fengu í hendurnar tölur yfir lóðir fyrir íbúðahúsnæði sem hefur verið úthlutað í fyrra og í ár á Suðurnesjum. Í Grindavík var 14 lóðum úthlutað árið 2015 - fjórum lóðum árið 2016. Árið 2016 var fjögurra íbúða raðhúsi úthlutað í Sandgerði, eða einni lóð. Ekkert var úthlutað í fyrra. Samkvæmt Jóni Ben Einarssyni, sviðsstjóra umhverfis-, skipulags- og byggingarmála í Garði og Sandgerði þá stóð mikið af húsnæði hins vegar autt í sveitarfélaginu líkt og í Garði og einnig var í einhverjum tilfellum um að ræða hús sem voru í byggingu þar sem framkvæmdir höfðu legið niðri undanfarin ár. Mikið hefur selst af eignum sl. ár og talsvert verið að klára framkvæmdir við eignir sem voru komnar í byggingu við hrunið. Engum lóðum var úthlutað í Garði í ár og í fyrra. Mikið af húsnæði stóð hins vegar autt í sveitarfélaginu og einnig var í einhverjum tilfellum um að ræða hús sem voru í byggingu en framkvæmdir höfðu legið niðri undanfarin ár. Þessar eignir hafa mikið verið að seljast og nú er verið að leggja lokahönd á tæplega 20 eignir sem hafa staðið hálfkláraðar undanfarin ár. Í Vogum var engum lóðum úthlutað bæði árin.

Í Reykjanesbæ var alls 99 lóðum úthlutað í ár og í fyrra: Laufdalur 17-23 7 íbúðir Leirdalur 29-37 5 íbúðir Lerkidalur 02-48 23 íbúðir

Vallarás 16 1 íbúð Víðidalur 34-64 15 íbúðir Dalsbraut 02 16 íbúðir

Fólk virðist eiga fyrir hlutunum ■■Staðan hjá rafvirkjum er virkilega góð þessi misserin. Guðmundur Ingólfsson rekur nú rúmlega 50 ára gamalt fyrirtæki, Rafverkstæði IB, sem faðir hans heitinn stofnaði á sínum tíma. Guðmundur segir stöðuna vera mjög góða. Allir hafi nóg að gera og að eftirspurn eftir iðnaðarmönnum sé mikil. „Maður er búinn að finna þetta jafnt og þétt aukast alveg frá áramótum í fyrra til dagsins í dag,“ segir Guðmundur sem sjálfur hefur verkefni fram að páskum á næsta ári. Undanfarna mánuði hefur hann því aukið talsvert við starfsfólk hjá sér til þess að mæta öllum þessum verkefnum. Hann man vel eftir góðærinu Ragnhildur Helga og Guðmundur Þórir Ingólfsbörn, fyrirtækið er 51 árs. á sínum tíma en segir fólk öðruvísi þenkjandi í dag. „Fólk virðist eiga fyrir hlutunum, það hefur jafnvel safnað fyrir þeim,“ Guðmundur segir að mikið sé að gera í rafmagninu þegar kemur að fyrirtækjum á svæðinu. Talvert sé af framkvæmdum í kringum ferðamannaiðnaðinn, þá sérstaklega mikið í kringum bílaleigur og slíkt.

Húsanes ætlar að byggja 100 íbúðir í Reykjanesbæ ■■Halldór Ragnarsson, framkvæmdastjóri Húsaness, er ásamt góðum aðilum að leggja lokahönd á 15 íbúðir í Bjarkadal í Innri-Njarðvík. Það er ekki langt síðan að það hús var varasamt leiksvæði fyrir börn sem bjuggu í nágrenninu. Verkefnastaðan er mjög góð hjá fyrirtækinu um þessar mundir. Áformað er að fyrirtækið byggi 100 íbúðir í Reykjanesbæ á næstu fjórum árum. „Þetta hefur alveg gjörbreyst bara á einu og hálfu ári. Þegar það eru útboð þá er það að fara á kostnaðaráætlun eða jafnvel meira. Maður þekkti það bara ekki áður fyrr. Það er mikið líf í þessu,“ segir Halldór. Þessa stundina er verið að ljúka við 15 íbúðir í Innri-Njarðvík eins og áður segir, en þar nærri verður hafist handa við að byggja tíu íbúðir til viðbótar innan skamms. „Við ætlum svo að byggja 68 íbúðir við Framnesveg þar sem gamli Jökull var áður,“ segir Halldór. Um er að ræða fjögur hús sem verða á fjórum og fimm hæðum með bílakjallara. Þar er gert ráð fyrir því að útsýnið fái að njóta sín sem best.

Það eru miklar framkvæmdir í Helguvík.

Íbúðirnar seldust á hálfum mánuði

Halldór Ragnarsson, framkvæmdastjóri Húsaness

Húsin sem unnið er í í Innri-Njarðvík voru búin að standa auð frá hruni en Húsanes keypti þau síðasta haust. Íbúðirnar voru fokheldar þá en eru nú að verða tilbúnar. Þegar er búið að selja allar íbúðir og það á örskömmum tíma. „Þær fóru bara á hálfum mánuði,“ segir Halldór og bætir við. „Ég hef nú ekki lent í þessu áður en rúmlega helmingur af þeim kaupendum er utan af landi eða frá höfuðborgarsvæðinu. Ég man ekki til þess að svona stórt hlutfall utanaðkomandi hafi komið í einu þegar maður hefur selt nokkrar íbúðir.“ Eftir hrun hefur verið hark í þessum bransa. Húsanes hefur verið í hálfgerðri útlegð en nú er nóg að gera á heimaslóðum. „Síðan 2012 höfum við eiginlega bara verið í útlegð. Verið að vinna í Breiðholti, Hafnarfirði og Húsafelli, bara þar sem við finnum okkur vinnu. Hér var svo lemstrað atvinnulífið en nú hefur allt snúist við um 360° gráður. Atvinnuástandið hérna er þannig að hér sárvantar fólk í vinnu. Það eru ánægjuleg tíðindi.“

Lúxus hótel mun rísa við Bláa Lónið.

Dalsbraut 04 16 íbúðir Dalsbraut 06 16 íbúðir


12

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 26. maí 2016

Útskriftanemendur FS á vorönn 2016.

FS útskrifaði 80 nemendur ●●FS fagnar 40 ára afmæli í haust - 5000. nemandinn útskrifaður frá skólanum

Skólaslit vorannar og brautskráning Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram nú um helgina þar sem 80 nemendur útskrifuðust. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Lovísa Guðjónsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Ægir Sigurðsson kennari flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Að venju var flutt tónlist við athöfnina en að þessu sinni flutti söngsveitin Drengjabandið tvö lög undir stjórn Gunnlaugs Sigurðssonar stærðfræðikennara. Drengjabandið er hópur kennara og starfsmanna sem hittist reglulega og syngur saman. Hópurinn hefur undanfarin ár sungið við ýmsar uppákomur í skólanum við góðan orðstír. Skólinn fagnar 40 ára afmæli í haust og var því verið að slíta 80. önninni í sögu skólans. Svo skemmtilega vildi til að við þessa útskrift var 5000. nemandinn útskrifaður frá skólanum. Það var Einar Ingi Kristmundsson sem lauk stúdentsprófi af náttúrufræði-

braut og fékk hann blómvönd í tilefni þessa áfanga. Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Skiptineminn Nonoko Mori frá Japan fékk gjöf til minningar um veru sína í skólanum og á Íslandi. Lovísa Guðjónsdóttir og Ellen Hrund Ólafsdóttir fengu viðurkenningar fyrir störf í þágu nemenda, Ingibjörg Þóra Þórarinsdóttir fyrir íþróttagreinar, Ingibjörg Sól Jónsdóttir fyrir spænsku og Manuel Björn Gomes Jóhannsson fyrir góðan árangur í ensku. Tvíburabræðurnir Arnór Smári og Patrekur Örn Friðrikssynir fengu báðir viðurkenningu fyrir árangur sinn í viðskiptagreinum, Emil Ragnar Ægisson fyrir efnafræði og Gunnar Dagur Jónsson fékk sömuleiðis viðurkenningu fyrir góðan árangur í efnafræði. Kinga Sawicka fékk verðlaun frá Ísbrú, félagi kennara sem kenna íslensku sem annað tungumál, fyrir góðan árangur í íslensku hjá nemanda sem er með annað móðurmál. Heiðar Örn Hönnuson fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í dönsku og hann fékk einnig gjöf frá danska sendiráðinu fyrir árangur sinn í dönsku.

Guðni Kjartansson lét af störfum eftir áratugi í FS eða frá árinu 1980.

Kristján Ásmundsson, skólameistari afhenti Ólafi B. Sigurðssyni kennara í rafiðnaðargreinum og Lárusi Pálmasyni, kennara í netagerð gullmerki fyrir 25 ára starf.

Ingunn María Haraldsdóttir fékk viðurkenningu fyrir árangur sinn í fata- og textílgreinum og hún fékk einnig gjöf frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í verk- og listgreinum. Aþena Eir Jónsdóttir fékk viðurkenningu frá skólanum fyrir góðan árangur í félagsfræði og einnig fyrir árangur sinn í viðskiptagreinum. Margrét Rut Reynisdóttir fékk viðurkenningar fyrir sálfræði- og uppeldisfræði, félagsfræði og spænsku og hún fékk einnig gjöf frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í samfélagsgreinum. Bjarki Jóhannsson fékk viðurkenningar fyrir árangur sinn í stærðfræði, spænsku og eðlis- og efnafræði. Hann fékk einnig gjöf frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði og frá Þekkingarsetri Suðurnesja fyrir árangur í raungreinum. Bjarki fékk síðan gjöf frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í stærðfræði og raungreinum. Bjarki hlaut einnig raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík en þau hlýtur sá nemandi sem nær bestum árangri í raungreinum á stúdentsprófi. Hann fékk bók að gjöf en kjósi verðlaunahafi að hefja nám við Háskólann í Reykjavík fær hann auk þess nýnemastyrk og niðurfelld skólagjöld fyrstu önnina í námi. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti 100.000 króna námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift og hlaut Bjarki Jóhannsson styrkinn. Bjarki fékk einnig 30.000 króna styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi. Við útskriftina veittu nemendafélagið NFS, foreldrafélag skólans og Reykjanesbær verðlaun fyrir jákvæða framkomu á skemmtunum félagsins í vetur og afhenti Lovísa Guðjónsdóttir, frá-

farandi formaður NFS, verðlaunin. Það voru þau Ástrós Brynjarsdóttir og Kristján Þórarinn Ingibergsson sem voru dregin úr hópi þeirra nemenda sem uppfylltu skilyrðin fyrir þátttöku en þau fengu bæði spjaldtölvu að gjöf. Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktarsjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita nemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Hjörtur Sölvi Steinarsson fékk 20.000 króna styrk fyrir góða frammistöðu í ræðumennsku og góðan árangur í lífsleikni og nemendafélagið fékk 150.000 króna styrk vegna góðs árangurs í MORFÍS, mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna.

Verðlaunahafar við útskriftina.

Við athöfnina veitti skólameistari Ólafi Baldvin Sigurðssyni kennara í rafiðngreinum og Lárusi Pálmasyni kennara í netagerð gullmerki Fjölbrautaskóla Suðurnesja en þeir hafa báðir starfað við skólann í 25 ár. Það er hefð að veita starfsfólki skólans þessa viðurkenningu við þessi tímamót. Við lok útskriftarinnar var Guðni Kjartansson íþróttakennari kvaddur en hann lætur nú af störfum eftir að hafa kennt við skólann frá árinu 1980. Stúdentar voru 56. 24 luku starfseða verknámsprófi af hinum ýmsu brautum, flestir af listnámsbraut eða sex talsins, en fimm nemendur útskrifuðust af sjúkraliðabraut. Þá luku níu nemendur prófi af starfsbraut. Nokkrir nemendur brautskráðust af tveimur námsbrautum. Karlar voru 43 og konur 37. Alls komu 63 úr Reykjanesbæ, sjö úr Grindavík, fjórir úr Garði, tveir úr Sandgerði og einn úr Vogum. Einn kom frá Þorlákshöfn, einn frá Hvolsvelli og einn frá Höfn í Hornafirði. Þá lauk einn skiptinemi námi frá skólanum.


markhönnun ehf

www.netto.is VÖRURNAR FÁST Í VERSLUN NETTÓ KROSSMÓA


14

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 26. maí 2016

●●Viðskipti og atvinnulíf:

Airport Associates stækkar um 75-80% á þessu ári ●●Starfsmenn verða 520 í sumar ●●Ráða 120 starfsmenn frá Póllandi í framtíðarstörf ●●Hraður vöxtur flugfélaga veldur vexti fyrirtækisins ●●Ráðast í byggingu 4000 fermetra vöru- og þjónustuhúss Vöxturinn á Keflavíkurflugvelli hefur ekki farið framhjá neinum. Eitt þeirra fyrirtækja sem hafa vaxið hægt og hljótt í þjónustu við flugið en þó nokkuð hratt síðustu misseri er fyrirtækið Airport Associates. Það er með margþætta þjónustu á Keflavíkurflugvelli og þjónustar marga tugi flugfélaga, höndlar með þúsundir tonna í vöruflutningum og innritar um 900.000 farþega í flug á þessu ári. Starfsmannafjöldi Airport Associates fer í um 520 á þessu ári en sá fjöldi er ígildi álvers í fjölda starfsmanna. Starfsemin hefur vaxið hratt og eigendur fyrirtækisins hafa ákveðið að nota hagnaðinn af starfseminni í frekari uppbyggingu og þá þykir Airport Associates líka góður vinnuveitandi. Sigþór Kristinn Skúlason er einn eigenda fyrirtækisins og framkvæmdastjóri þess en hann hefur verið í fyrirtækinu nánast frá fyrstu dögum þess. „Við höfum verið að vaxa á hverju einasta ári en fyrirtækið byrjaði árið 1997 og verður því 20 ára á næsta ári. Sigþór inni í einu af herbergjum í fjölbýlishúsum fyrirtækisins á Ásbrú.

Airport Associates byrjaði í fraktflutningum en í upphafi var einokun hérna og Icelandair var eini aðilinn í flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli. Hægt og rólega losnuðu þessu höft og árið 2002 hóf fyrirtækið að afgreiða farþegavélar og síðan þá höfum við verið að auka við okkur ár frá ári.“ Í hugum flestra er Airport Associates fyrirtæki sem sér um afgreiðslu flugvéla með því að koma farangri um borð. Starfsemin er þó mun viðameiri hjá ykkur? „Við sjáum um allt sem tengist fluginu frá A-Ö. Við innritum farþega þegar þeir koma í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, við afgreiðum töskur og frakt um borð og allt sem þarf við flugvélina, hvort sem það er matvara eða annað. Við afísum flugvélar og sjáum um alla vinnu á flughlaði og ýtum vélum frá flugstöðinni. Þá erum við með vöruhúsaþjónustu með allri alhliða þjónustu, hleðslueftirlit (e. Load Control), við erum við ræstideild sem sér um að

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í Reykjanesbæ heimsótti Sigþór K. Skúlason framkvæmdastjóra Airport Associates í fjölbýlishús fyrirtækisins á Ásbrú. Kjartan heilsaði upp á nýja starfsmenn frá Póllandi og ræddi við þá.

þrífa flugvélar og þá erum við með Duty Free-þjónustu fyrir flugvélar og sjáum um þann þátt frá A-Ö þannig að farþegar geti keypt tollfrjálsan varning um borð í flugvélum“. Sigþór segir starfsemi Airport Associates vera flókna á margan hátt og í mörgum deildum, enda ýmislegt sem þarf að gera til að koma flugvél og farþegum til og frá Keflavíkurflugvelli.

Flugfélögin stækka hratt

Það hefur verið mikill vöxtur hjá fyrirtækinu á síðustu árum. Hver er ástæðan? „Vöxtur fyrirtækisins hefur verið stöðugur frá upphafi en árið 2011 þá byrjar, eins og Íslendingar þekkja, hálfgerð sprengja í ferðaþjónustu. Síðan þá höfum við verið að vaxa um 30 prósent á ári en á þessu ári erum við að vaxa mjög mikið, eða um 75 til 80 prósent. Það stafar fyrst og fremst af því að þau flugfélög sem við erum að þjónusta eru að stækka mikið. WOWAIR er að stækka um meira en 100 prósent, WIZZAIR er að fjórfalda starfsemi sína hér á landi og Delta Airlines er að stækka mikið hér á landi og þessi félög eru að búa til þennan mikla vöxt hjá okkur.“ Til marks um það hve hraður vöxturinn er þá gerðu áætlanir fyrir hálfu ári ráð fyrir 25 til 30 prósenta vexti en hann verður 75 til 80 prósent eins og fyrr segir. Er ekki flókið að vera með svona mörg og ólík flugfélög í þjónustu? „Jú, jú, það er mikið flækjustig sem fylgir því. Félögin eru ólík og sum gera

miklar kröfur á meðan önnur gera minni kröfur. Við erum að vinna í dag á sex innritunarkerfum og það eru mismunandi verkferlar sem hvert flugfélag kallar eftir, þannig að það er flækjustig sem fylgir því“. Eins og segir hér að framan stefnir í að starfsmenn Airport Associates verið 520 í sumar en næsta vetur fækkar þeim aftur í 400 til 450. Sumarvertíðin er alltaf stærri í fluginu þó svo að tímabilið sé að lengjast í báða enda. Þá hefur vetrartraffík verið að aukast sem er, að sögn Sigþórs, mun betra fyrir reksturinn í stað þess að þurfa í raun alltaf að vera að starta upp rekstri á vorin og loka á haustin. Í sumar verða 25 flugfélög í áætlunarflugi til Keflavíkur og Airport Associates er með ríflega 20 þeirra í þjónustu. Sigþór segir fjölda annarra flugfélaga einnig vera í þjónustu hjá fyrirtækinu. Fjöldi flugfélaga noti Keflavíkurflugvöll reglulega á hverju ári þó svo þau séu ekki með áætlunarflug hingað og þar sé Airport Associates að afgreiða miklu fleiri félög.

Ræður við verkefnið en það er alls ekki auðvelt

Aðspurður hvort fyrirtækið ráði við allan þennan vöxt þá segir Sigþór að verkefnið sé alls ekki auðvelt. „En við erum að ráða við vöxtinn. Við þurfum að ráðast í alls konar stækkanir á öllum sviðum og erum að sprengja utan af okkur húsnæðið. Við erum að byggja tvær byggingar hér við aðalbygginguna okkar. Þar verður stórt vöruhús og aðstaða fyrir starfsmenn fyrirtækisins, skrifstofur, hleðslueftirlit og annað slíkt. Alls eru það 4000 fermetrar sem verða byggðir á þessu ári og inn í næsta ár.“ Stækkun á húsnæði er mikil fjárfesting fyrir félagið og þá er einnig verið að kaupa tækjabúnað fyrir hundruð milljóna króna á ári. Þá hefur Airport Associates ráðist í kaup á tveimur fjölbýlishúsum á Ásbrú sem hefur verið breytt í íbúðir fyrir erlent starfsfólk fyrirtækisins. Airport Associates hefur þurft að ráða 120 starfsmenn frá Póllandi og er hluti starfsfólksins þegar kominn til landsins og hefur hafið störf hjá fyrirtækinu. Sigþór segir að fyrirtækið hafi fengið ráðningaskrifstofu í Póllandi til liðs við sig sem hafi unnið alla nauðsynlega undirbúningsvinnu, auglýst eftir fólki og þess háttar. Airport Associates sendi svo stjórnendur út til að taka starfsmannaviðtöl og meta hvort fólk sé hæft. Miklar kröfur eru gerðar til

fólks sem starfar á flugvallarsvæðinu og þannig gerði fyrirtækið kröfu um góða enskukunnáttu og hefur nú ráðið til sín stóran hóp starfsmanna sem eru margir hverjir með mikla og góða menntun. „Þetta er virkilega flott fólk,“ segir Sigþór.

Góður aðbúnaður fyrir erlent starfsfólk á Ásbrú

ÍAV hefur undanfarnar vikur unnið að því að standsetja íbúðir í fjölbýlishúsunum á Ásbrú. Þar er aðbúnaður mjög góður. Þar hafa starfsmenn herbergi með hreinlætisaðstöðu, ísskáp og örbylgjuofni. Þá eru eldhús á hverri hæð, stór sameiginleg setustofa með sjónvarpi og þá er rými fyrir námskeiðahald í húsunum enda ýmis námskeið sem starfsmenn á flugvallarsvæðinu þurfa að sækja. ÍAV þjónustar íbúana og heldur til að mynda með þeim vikulega fundi. Við komuna til landsins fá nýju starfsmennirnir upplýsingamöppu um alla helstu þjónustu á svæðinu. Sigþór segist vonast til þess að starfsfólkið verði hér til lengri tíma en bara í sumar. „Við vonumst til þess að þetta fólk setjist hérna að. Ég veit til þess að margir sem við erum að ráða núna eru með fjölskyldu sem á eftir að koma,“ segir Sigþór. Hann segir starfsmennina sem koma frá Póllandi í leit að betri lífsgæðum og tækifærum. Launin hjá Airport Associates séu fimm til sem sinnum hærri en fyrir sambærileg störf í Póllandi. Sigþór segist heppinn að húsnæði hafi verið á lausu á Ásbrú og hann hafi ekki viljað hugsa þá hugsun til enda hvar hefði átt að koma starfsfólki fyrir með svo skömmum fyrirvara.

Hefur trú á verkefninu

Er hægt að gera ráð fyrir endalausri aukningu? Hvernig horfið þið á þessa fjárfestingu ykkar til framtíðar? „Við værum ekki að fjárfesta svona mikið og leggja þetta mikið í þetta nema við hefðum trú á verkefninu. Það eru allar spár sem benda til áframhaldandi vaxtar, kannski ekki svona rosalega mikill en næstu árin talsvert mikill. Þetta byggjum við á spám hagsmunaaðila eins og banka, Isavia og þeirra sem starfa í þessum geira. Ísland er ákjósanlegur kostur fyrir þá sem vilja ferðast og það dregur ekkert úr vinsældum landsins. Ég hef virkilega mikla trú á þessu,“ segir Sigþór Kristinn Skúlason, framkvæmdastjóri Airport Associates.

Texti: Páll Ketilsson og Hilmar Bragi Bárðarson Myndir: Hilmar Bragi og úr kynningarefni Airport Associates


Þekking í þína þágu

Langar þig í nám?

Sérhæft sölu- markaðs og rekstrarnám

Skrifstofuskólinn, alhliða skrifstofunám

• • • • •

• Tölvur • Bókhald • Skrifstofutækni

Markaðsfræði Viðskiptaáætlun Verkefnastjórnun Tölvur Samningatækni

Skilar þér öflugri í störf tengd sölu og rekstri.

Góður undirbúningur fyrir störf í nútíma fyrirtæki.

Hefst í september 2016

Hefst í september 2016

Verð: 84.000 kr.

Minnum á einstaklingsstyrki hjá stéttarfélögunum Ætlað fólki 20 ára eða eldri með stutta formlega skólagöngu að baki.

Skráning í síma 421 7400 eða á mss.is

Verð: 49.000 kr.


16

VÍKURFRÉTTIR

ATVINNA

STARFSKRAFTUR ÓSKAST Í AFLEYSINGAR VIÐ RÆSTINGAR ( MÖGULEIKI Á FÖSTU STARFI )

Óskað er eftir konu til starfa við ræstingar. Um 100% starf er að ræða Vinnutími í júní er 06:00 til 12:00 Annars er vinnutími 08:00 til 16:00 Viðkomandi verður að hafa gild ökuréttindi og tala íslensku eða hafa gott vald á ensku. Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Viðkomandi þarf að vera stundvís og hafa góða framkomu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknum skal skila á vef Allt hreint sem er: allthreint.is undir liðnum : „Atvinna í boði “ eða á póstfangið halldor@allthreint.is Ath fyrirspurnum er ekki svarað í síma!

SMÁAUGLÝSINGAR Óskast

Reglusöm kona óskar eftir leiguhúsnæði í Sandgerði frá og með ágúst 2016. Nánari upplýsingar í síma 6186212

Til sölu

Svefnsófi, kr. 10.000,Borð og sex stólar, kr. 10.000,Tölvuborð, kr. 3000,Fjórir stólar fást gefins. Er í Víðigerði 20 í Grindavík, er við frá 15:00 til 18:00, er í síma 426-8266, Stína.

Verið velkomin

FATAEFNI 50% AFSLÁTTUR GARN 30% AFSLÁTTUR

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

A L A ÚTS

fimmtudagur 26. maí 2016

Skóhornin

fást hjá okkur

72 cm, Kr. 1800,52 cm, Kr. 1200,42 cm, Kr. 1000,-

Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 11:00 til 18:00 Laugardaga frá kl. 11:00 til 17:00. Sunnudaga frá kl. 12:00 til 16:00.

FIMMTUDAGURINN 26. MAÍ KL. 20:00 Vortónleikar Eldeyjar, kór eldri borgara á Suðurnesjum. Þau munu syngja undir stjórn Arnórs organista í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Aðganseyrir er 1000 kr. Allir velkomnir. SUNNUDAGINN 29. MAÍ KL. 11:00 Messa með léttu sniði þar sem fermingarbörnum 2017 og fjölskyldum er sérstaklega boðið. Ungmennakórinn Vox Felix syngur undir stjórn Arnórs organista. Prestar eru Erla og Eva Björk. Messan fer fram í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju vegna framkvæmda í kirkjuskipi. SKRÁNING Í FERMINGARFRÆÐSLU 2017 Skráning í fermingarfræðslu 2016-2017 er hafin og er hún með rafrænum hætti. Formið er að finna á keflavikurkirkja.is/ferming/skraning

www.vf.is

Íbúar Innri Njarðvíkur hreinsa hverfið og grilla ■■Íbúar Innri Njarðvíkur halda rusladag í Innri Njarðvík næstkomandi laugardag, 28. maí. Þá er ætlunin að tína upp rusl um allt hverfið og enda svo dagsverkið með grillveislu sem verður við Akurskóla. Rusladagurinn mun standa frá klukkan 12 til 17 og eru allir íbúar Innri Njarðvíkur hvattir til að taka þátt í deginum. Það virðist líka vera samtakamáttur í Innri Njarðvíkingum því fjölmargir hafa boðað þátttöku sína í deginum á fésbókarsíðu sem stofnuð hefur verið um verkefnið. Innri Njarðvík hefur verið skipt upp í sjö svæði og skipaðir hafa verið hópstjórar fyrir hvert svæði. Reykjanesbær leggur hreinsunardeginum lið með því að útvega þá ruslapoka sem þarf og mun svo sjá um förgun á því rusli sem safnað verður saman á ákveðna staði á viðkomandi svæðum.

Góður árangur í innheimtu í Vogum ■■Innheimta opinberra gjalda á vegum Sveitarfélagsins Voga gengur vel. Nú liggur fyrir að aukning var á greiðsluhraða út frá fjölda krafna milli áranna 2014 og 2015. Hlutfall greidds höfuðstóls hækkaði jafnframt á milli ára, og meira en hjá meðalsveitarfélaginu. Fjöldi innsendra mála í svokallaðri milliinnheimtu hefur dregist saman um 39,2 prósent frá árinu 2013, og fjöldi innsendra kennitalna einstaklinga hefur fækkað um 26,3 prósent frá árinu 2013. Af þessari þróun má draga þá ályktun að fjárhagsstaða hafi almennt batnað hjá íbúum sveitarfélagsins, sem er sérstakt fagnaðarefni, segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum í fréttabréfi sem hann heldur úti í Sveitarfélaginu Vogum. „Þessum árangri er einnig að þakka vönduðum og faglegum vinnubrögðum við innheimtuna, þar sem leiðarstefið er að mæta öllum greiðendum með góðar lausnir að markmiði,“ segir Ásgeir jafnframt.

UPPBOÐ Einnig birt á www.naudungarsolur.is.

OKKUR VANTAR GÓÐA MENN!

Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum miðvikudaginn 1. júni nk. sem hér segir:

Blikksmiði eða smiði sem hafa reynslu af vinnu við utanhússklæðningar. Umsóknir sendist á netfang reynir@bergraf.is.

Heiðarvegur 25, Keflavík, fnr. 2089052 , þingl. eig. Davíð Eldur Baldursson, gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Íbúðalánasjóður, kl. 08:35.

Upplýsingar veita Reynir í síma 664 7430 og Kristinn í síma 695 6444.

Hringbraut 77, Keflavík, fnr. 208-9311 , þingl. eig. Lárus Arnar Gunnarsson og Sonja Guðrún Viðarsdóttir, gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Íbúðalánasjóður, kl. 08:45.

Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurnesja verður haldinn miðvikudaginn 15. júní kl. 17:00 á PARKINN hótelinu í Reykjanesbæ. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.

Austurbraut 6, Keflavík, fnr. 2086910 , þingl. eig. Sigurborg Guðný Sigurjónsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Reykjanesbær, kl. 08:25.

Kirkjuvegur 44, Keflavík, fnr. 2089672 , þingl. eig. Kristjana Birna Svansdóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Vátryggingafélag Íslands hf. kl. 08:55. Greniteigur 7, Keflavík, fnr. 208-7750 , þingl. eig. Kaja Ósk Bech Skarphéðinsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf. kl. 09:05. Háteigur 25, Keflavík, fnr. 208-8329 , þingl. eig. Jóhanna María Einarsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf. Reykjanesbær, kl. 09:15. Heiðarholt 26, Keflavík, fnr. 2088823 , þingl. eig. Sævar Ingi Jóelsson, gerðarbeiðandi Festa - lífeyrissjóður, kl. 09:25. Birkitún 1, Garður, fnr. 229-9852 , þingl. eig. Arnrún Karlsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf. kl. 09:40.

Valbraut 11, Garður, fnr. 209-5812 , þingl. eig. Ægir Þór Lárusson og Ágústa Guðný Árnadóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, kl. 09:50.

Tjarnabraut 8B, Njarðvík, fnr. 2288308 , þingl. eig. Hjalti Guðmundsson ehf., gerðarbeiðendur HS Veitur hf. og Reykjanesbær, kl. 11:25.

Strandgata 10, Sandgerði, fnr. 2095049 , þingl. eig. Hafliði Þórsson, gerðarbeiðendur BYR hf., Sandgerðisbær, Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og Sjóvá-Almennar tryggingar hf. kl. 10:05.

Tjarnabraut 8C, Njarðvík, fnr. 2288310 , þingl. eig. Sigtryggur Jón Gíslason, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Tryggingamiðstöðin hf. kl. 11:35.

Strandgata 10, Sandgerði, fnr. 2095050 , þingl. eig. Hafliði Þórsson, gerðarbeiðendur BYR hf., Sandgerðisbær, Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og Sjóvá-Almennar tryggingar hf. kl. 10:05. Holtsgata 7A, Sandgerði, fnr. 2216620 , þingl. eig. Eyþór Örn Haraldsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, kl. 10:20. Breiðhóll 4, Sandgerði, fnr. 230-6556 , þingl. eig. Eva Lísa Reynisdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, kl. 10:30. Hólagata 37, Njaðvík, fnr. 221-6461 , þingl. eig. Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, kl. 10:50. Stapabraut 5, Innri Njarðvík, fnr. 229-0262 , þingl. eig. Stapabraut ehf., gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Húsfélagið Stapabraut 5, kl. 11:05. Mávatjörn 10, Njarðvík, fnr. 2284377 , þingl. eig. Stefán Hjálmarsson og Victoria Nunez Cavazos, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Tryggingamiðstöðin hf. kl. 11:15.

Guðnýjarbraut 9, Innri Njarðvík, fnr. 230-1082 , þingl. eig. Kristinn Sófus Pálmason og Anna Margrét Ingólfsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, kl. 11:45. Heiðargerði 5, Sveitarfélagið Vogar, fnr. 228-4645 , þingl. eig. Kamphoung Lomain og Sirilak Lomain, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sveitarfélagið Vogar, kl. 12:10. Iðavellir 1, Grindavík, fnr. 209-2000 , þingl. eig. Ingibjörg D Dagbjartsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf. kl. 12:35. Heiðarhraun 28, Grindavík, fnr. 2091835 , þingl. eig. Þórhildur Rut Einarsdóttir og Hallgrímur Bogason, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, kl. 12:45. Teigur 129205, Grindavík, fnr. 2092853 , þingl. eig. Ólafía Jóna Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, kl. 13:00. Hafnargata 26, Grindavík, fnr. 2091775 , þingl. eig. Eldhamar ehf, gerðarbeiðandi Grindavíkurbær, kl. 13:15.

Sýslumaðurinn á Suðurnesjum, 23 maí 2016. Ásgeir Eíriksson, staðgengill sýslumanns.


29

34

Prófaðu Fabiu í sólarhring 4x4

20

4x4

34

30

68

5 6

120

kr

kr

4x4

ŠKODA Fabia býr yfir ótal kostum, en fögur orð og fyrirheit koma ekki í staðinn fyrir persónulega reynslu. Því langar okkur að lána þér Fabiu í sólarhring. Komdu við hjá okkur eða sendu póst 26

á skoda@hekla.is og fáðu nýja ŠKODA Fabiu til reynslu í 24 tíma. Hlökkum til að sjá þig. 28

28

Verð frá aðeins

44 2.290.000 kr. x

kr

HEKLA · Njarðarbraut 13 · Reykjanesbæ · Sími 590 5090 · heklarnb.is

kr

4x4

www.skoda.is


18

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 26. maí 2016

ÍÞRÓTTIR

Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is

Síðasti grannaslagur í 1. deild fyrir 24 árum ●●Keflvíkingar unnu Grindavík síðast 4-1 ● árið 1992 í næst efstu deild Síðast mættust Grindvíkingar og Keflvíkingar í næst efstu deild í knattspyrnu karla árið 1992. Keflvíkingar höfðu þá 4-1 sigur. Kjartan Einarsson og Ingvar Áskell Guðmundsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Keflavík í leiknum. Þorsteinn Bjarnason skoraði mark Grindvíkinga úr víti. Keflvíkingar fóru upp í efstu deild það árið en Grindvíkingar voru í þriðja sæti 11 stigum á eftir grönnum sínum. Liðin mætast nú 24 árum síðar á Nettóvellinum klukkan 14:00 á laugardag. Grindvíkingar eru ósigraðir á toppnum eftir þrjár umferðir á meðan Keflvíkingar hafa gert tvö jafntefli og eru fjórum stigum á eftir nágrönnum sínum í fjórða sæti.

höfum ekki tapað leik og spilað á tveimur erfiðum útivöllum. Það yrði hrikalega gaman að enda þeirra sigurgöngu í deildinni á laugardaginn,“ bætir hann við.

Mikilvægur leikur upp á framhaldið

Yrði gaman að enda sigurgöngu Grindvíkinga

Sigurbergur Elisson hefur farið vel af stað með Keflvíkingum í sumar en hann er að stíga upp úr erfiðum meiðslum. Hann fór í aðgerð í febrúar og byrjaði að spila fótbolta aðeins tveimur vikum fyrir mót. „Ég er í þokklegu standi. Mér líður hrikalega vel í líkamanum,“ segir Sigurbergur sem skorað hefur tvö mörk og einnig lagt upp mörk fyrir félaga sína. „Það er alltaf gaman að mæta Grindavík. Maður er búinn að sakna þess smá. Það yrði skemmtilegra ef það væri í Pepsi-deildinni en 1. deildin er gríðarlega sterk. Þessir leikir verða alltaf hörku skemmtun,“ segir Sigurbergur um grannaslaginn. „Þeir eru búnir að byrja hrikalega vel og við höfum byrjað þokkalega,

Eftir dvöl á Englandi og í Vestmannaeyjum er miðjumaðurinn Gunnar Þorsteinsson kominn á heimaslóðir í Grindavík. Gunnar segist gríðarlega ánægður með að hafa tekið þá ákvörðun að koma aftur heim. „Klisjan á vel við hérna. Maður þarf stundum að taka skref aftur á bak til þess að taka tvö skref fram. Mig langaði að taka þátt í einhverju verkefni sem skilur eitthvað eftir sig. Það er verkefnið sem við erum í núna, við stefnum leynt og ljóst að því að fara upp,“ segir Gunnar. Gunnar hafði aðeins leikið tvo deildarleiki fyrir Grindavík áður en hann fór 17 ára gamall til Englands. Hann segist ánægður að vera kominn heim og vill axla ábyrgð í liðinu. „Maður er í þessu fyrir svona leiki og þessi augnablik. Ég reikna með að Keflvíkingarnir komi dýrvitlausir til leiks enda hefur byrjun þeirra valdið vonbrigðum. Það eru þó bara búnar þrjár umferðir þannig að menn mega ekki alveg missa sig. Það hefur enginn unnið neitt mót í maí. Þessi leikur er mjög mikilvægur upp á framhaldið að gera. Þeir ætla örugglega að nota hann til þess að kickstarta tímabilinu hjá sér á meðan við ætlum að halda áfram því góða róli sem við erum á.“

FUNDARBOÐ

Aðalfundur Félags myndlistamanna í Reykjanesbæ verður haldinn í Listasmiðjunni Keilisbraut 773 á Ásbrú, mánudaginn 26. maí n.k. kl. 20.00. Dagskrá aðalfundar • Setning • Kosning fundarstjóra og fundarritara • Skýrsla stjórnar • Endurskoðaðir reikningar lagðir fram • Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikninga • Lagabreytingar • Kosning stjórnar og varamanns skv. 5. grein • Kosning tveggja skoðunarmanna skv. 5. grein • Ákvörðun um árgjald • Önnur mál Félagar vinsamlegast takið daginn frá, fjölmennið á fundinn og takið með ykkur gesti. Stjórn FMR

FMR

Markmiðið er auðvitað að skora í hverjum einasta leik og vera sem mest í byrjunarliðinu

VAR PIRRUÐ YFIR ÞVÍ AÐ VERA Á BEKKNUM ●●Fjórtán ára skoraði fjögur mörk á 15 mínútum í bikarleik

„Ég var bara pirruð yfir því að vera á bekknum og langaði að láta þjálfarann vita af mér,“ segir Sveindís Jane Jónsdóttir og hlær þegar blaðamaður hittir hana á æfingasvæði Keflvíkinga í vikunni. Hin 14 ára gamla Sveindís komst heldur betur í sviðsljósið eftir að hún skoraði fjögur mörk á 15 mínútum í bikarleik Keflavíkur og Álftaness um liðna helgi. Hún kom þá inn á sem varamaður og gjörbreytti spennandi leik í stórsigur Keflvíkinga. Staðan var 1-1 þegar hún kemur inn á völlinn en það tók hana einungis sex mínútur að skora þrennu. Hún bætti fjórða markinu við skömmu síðar og lagði upp síðasta markið í 1-6 sigri Keflvíkinga. „Ég er mjög spennt fyrir sumrinu og er virkilega ánægð með okkar hóp og þjálfarann. Okkur gekk ekkert svakalega vel í fyrra en ég held að það breytist í sumar. Við erum með ungt lið en mér finnst við mjög góðar. Að mínu mati erum við búnar að bæta okkur mikið frá því í fyrra,“ segir Sveindís sem hefur nú skorað eitt mark í deildinni og svo þessi fjögur í bikarnum. Sveindís Jane byrjaði að æfa með meistaraflokki Keflvíkinga í fyrra. Hún var að klára níunda bekk og á því ár eftir í grunnskóla. Hún hefur ýmist leikið sem kantmaður eða framherji. Nú er hún einungis frammi og raðar inn mörkunum. Á undirbúningstímabilinu hefur hún verið iðin við kolann og skorað grimmt. Í yngri flokkum hefur

hún einnig verið dugleg við að skora mörkin. Sveindís horfir mikið á fótbolta og hefur brennandi áhuga. Hún fylgist vel með landsliðinu og lítur mikið upp til leikmanna eins og Margrétar Láru og Söru Bjarkar sem hafa gert það gott með landsliðinu og sem atvinnumenn. Hún ætlar sér að horfa á Ísland á EM karla í sumar og býst við skemmtilegri keppni.

Vil skora í hverjum leik og stefnir á A-landsliðið

„Mig langar bara að komast í A-landsliðið. Það er helsta markmiðið,“ segir Sveindís sem hefur þegar fengið forsmekkinn af því að spila fyrir Íslands hönd. Hún var yngsti leikmaðurinn sem fór með U17 ára landsliðinu til Finnlands um daginn. Þar lék hún í þremur leikjum og skoraði eitt mark gegn Rússum. Eins og sönnum framherja sæmir þá ætlar Sveindís sér auðvitað að skora sem mest í sumar. „Markmiðið er auðvitað að skora í hverjum einasta leik og vera sem mest í byrjunarliðinu. Ég ætla að standa mig bara eins vel og ég get,“ segir hin marksækna Sveindís. Hún æfir mikið og sjálf fer hún oft í fótbolta og æfir sig á milli æfinga. Eins á hún það til að mæta snemma á æfingar þar sem hún vinnur í ákveðnum hlutum til þess að bæta sig sem leikmann. „Það er eina sem virkar, að æfa sig mikið og vel,“ segir Sveindís að lokum.

Salbjörg til Keflvíkinga ■■Kvennalið Kef lav í kur í körfuboltanum hefur gengið frá samkomulagi við Salbjörgu Rögnu Sævarsdóttur og mun hún leika með liðinu í Domino’s deildinni næstu tvö ár. Salbjörg, sem er miðherji, kemur frá Hamarskonum en áður lék hún með Njarðvíkingum undir stjórn Sverris Þórs sem er núverandi þjálfari Keflvíkinga. Hún varð bæði Íslands- og bikarmeistari með Njarðvíkingum á sínum tíma og þekkir því vel til í Reykjanesbæ. Hún lék sinn fyrsta Alandsleik á þessu ári og mun koma til með að styrkja Keflvíkinga mikið í teignum.

Njarðvíkingar góðir á NM í júdó ■■Um helgina fór fram Norðurlandameistaramótið í Júdó. Njarðvíkingarnir Bjarni Darri Sigfússon, Ægir Már Baldvinsson og Heiðrún Pálsdóttir voru valin í hópinn sem átti að keppa á mótinu en aðeins Bjarni og Ægir kepptu því Heiðrún handleggsbrotnaði á Íslandsmótinu fyrir nokkrum vikum og þurfti því að sitja heima. Þeir Bjarni og Ægir stóðu sig mjög vel, Bjarni hafnaði í fjórða sæti og Ægir í því áttunda. Þetta keppnistímabil hefur verið með ólíkindum hjá Njarðvíkingum og þessi árangur einn sá besti sem hefur náðst að sögn Guðmundar Stefáns Gunnarssonar þjálfara hjá Njarðvíkingum.


fimmtudagur 26. maí 2016

19

VÍKURFRÉTTIR

ÖNDUNIN SKIPTIR MÁLI Í HLAUPUM

Nokkur ráð frá Guðbjörgu hlaupaþjálfara

●● Guðbjörg Jónsdóttir gefur góð ráð fyrir hlaupa- og skokksumarið

Búnaðurinn

„Best er að byrja rólega. Það er lykilatriði að fólki líði vel á meðan það hleypur og þá skiptir öndunin miklu máli,“ segir Guðbjörg Jónsdóttir, hlaupaþjálfari

Teygjur

sem trúir því að allir geti hlaupið og liðið vel á meðan. Ungir sem aldnir eru búnir að reima á sig hlaupaskóna og Guðbjörg gefur hér góð ráð til þeirra sem eru að stíga fyrstu hlaupaskrefin þetta sumarið. Guðbjörg segir gott viðmið á hlaupunum að verða ekki of móður, þá þurfi fólk að hægja á sér og einbeita sér að því að ná dýpri öndun. „Best að byrja á því að hlaupa tvisvar til þrisvar sinnum í viku og hlaupa þá rólega í 10 til 30 mínútur í senn og hafa hvíldardag á milli hlaupa. Þeir sem eru algjörir byrjendur og hafa ekki verið að stunda neina líkamsrækt síðasta hálfa árið, ættu að byrja á því að hlaupa tvisvar sinnum í viku. Fólk sem er lengra komið og í góðu líkamlegu formi getur hlaupið þrisvar sinnum í viku,“ segir hún.

Gott að æfa með hóp

Sumum finnst betra að hlaupa einir og öðrum finnst betra að vera í hlaupahóp. Guðbjörg segir að í flestum tilvikum sé betra að vera í hlaupahóp til að halda sér vel við efnið. „Svo er félagsskapurinn svo skemmtilegur og hvetjandi. Það eru að minnsta kosti tveir hlaupahópar í Reykjanesbæ;

við Hringbraut, við fótboltavöllinn. „Á námskeiðunum er lögð áhersla á að hlaupa og líða vel á meðan ásamt því að gera styrktaræfingar,“ segir Guðbjörg. Hægt er að skrá sig á námskeið hjá lífsstílsleiðbeinendum í FitZoneKeflavík í K-húsinu.

Almenningshlaup eru hvetjandi

Guðbjörg með vinkonu sinni, Unni Þorláksdóttur. Myndin var tekin eftir Kaupmannahafnarmaraþon um síðustu helgi.

3N og HFCN.“ 3N hittist á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 18 og klukkan 10 á laugardögum við Vatnaveröld í Reykjanesbæ. HFCN stendur fyrir HlaupaFitCampNámskeið og er fyrir byrjendur og aðeins lengra komna. Námskeiðin eru fjórar vikur í senn og hefst það næsta 7. júní. Hópurinn leggur af stað frá K-húsinu

Fjöldi almenningshlaupa fara fram hér á landi yfir sumartímann, um allt land. Guðbjörg segir það virkilega skemmtilegt og hvetjandi að taka þátt í hlaupum. „Mjög gaman er að fara til dæmis í Kvennahlaupið 4. júní, Color Run, 11. júní en það eru 5 km, Miðnæturhlaupið 23. júní þar sem hægt er að velja um 5, 10 eða 21,1 km. Svo er auðvitað Reykjavíkurmaraþonið 20. ágúst þar sem hægt er að velja um að hlaupa 3 km, 10 km og hálft eða heilt maraþon.“ Guðbjörg bendir á að allar nánari upplýsingar um hlaup séu á vefnum hlaup.is. Það er draumur margra að gera hlaupin að lífsstíl en það getur reynst erfitt. Besta ráð Guðbjargar við því er að fólk breyti hugsunarhættinum. „Margir sjá hlaup fyrir sér sem eitthvað sem verður að gera hratt og þá gefst fólk fljótt upp. Það virkar miklu betur að hlaupa hægar og einbeita sér að því að anda dýpra og líða vel á meðan hlaupið er og hafa gaman af.“

sig hlaupaskóna eftir vinnudaginn ●●Hleypur þrisvar til fjórum sinnum í viku og nýtur útiveru og félagsskapar hlaupafélaganna Elfa hlaupið nokkrum sinnum og fer þá malarveginn út í Voga.

Komu síðastar í mark

Í sumar ætlar Elfa að taka þátt í Kvennahlaupinu sem nú styttist óðum í en það verður 4. júní um allt land. „Mér f i n n s t Kv e n n a hlaupið alveg ómissandi. Ég hef tekið þ átt í nok k r um kvennahlaupum og hlaupið víðsvegar um landið. Það sem er jákvætt við þetta hlaup er að það geta allir tekið þátt og stutt við góðan málstað í leiðinni.“

Hægt að stunda hlaup alls staðar

Ófáir hafa byrjað að hlaupa en gefist upp eftir nokkur skipti. Aðspurð um góð ráð til að gera hlaupin að lífsstíl segir Elfa eitt af því jákvæða við hlaupin að þau sé hægt að stunda alls staðar. „Ég tek með mér hlaupafötin þegar ég fer upp í sumarbústað og tek æfingu. Ég hleyp þrisvar sinnum í viku og það sem veitir mér aðhald er að tilheyra hlaupahóp. Það hvetur mig áfram í hlaupunum. Ef ég kemst ekki á æfingu þá hleyp ég ein,“ segir Elfa.

Elfa Hrund skokkari.

Þegar hún er æfa fyrir hálfmaraþon hleypur hún fjórum sinnum í viku. Á hlaupunum hlustar Elfa ekki á tónlist, heldur spjallar við hlaupafélagana eða nýtur þess að hlusta á hljóðin í umhverfinu. Uppáhalds leiðin er frá Reykjanesbæ og í Voga á Vatnsleysuströnd í fallegu veðri. Þá leið hefur

Nauðsynlegt er að vera í íþróttaskóm eða hlaupaskóm og í íþróttafötum. Mjög mikilvægt er að teygja og hita vöðvana upp fyrir hlaup og sömuleiðis að teygja vel á eftir hlaup.

Það er gott að vera í hlaupahóp til að halda sér við efnið. Svo er félagsskapurinn líka góður.

Tæknin hjálpar

Það hjálpar að nota öpp, eins og til dæmis Runk e e p e r, t i l a ð halda utan um æfingarnar og fá hvatningu.

Ekki gefast upp

GÓÐ TILFINNING að reima á „Það sem mér finnst skemmtilegast við hlaupin er útiveran og að hlaupa með félögunum. Það er mjög góð tilfinning að reima á sig skóna að loknum vinnudegi og taka góða hlaupaæfingu,“ segir Elfa Hrund Guttormsdóttir sem byrjaði að hlaupa árið 2006 eftir að hafa skráð sig á h laup anámskeið. Hún segir nauðsynlegt að hreyfa sig úti og anda að sér fersku lofti eftir alla inniveruna. Elfa hefur hlaupið með 3N, þríþrautarhópi UMFN, í nokkur ár en tók sér hlé frá hlaupum um síðustu áramót og hóf að stunda Metabolic. Hún er núna búin að skrá sig á hlaupanámskeið til að koma sér í gírinn fyrir sumarið.

Góður félagsskapur

Elfa hefur tekið þátt í nokkrum hlaupum hérlendis og eftirminnilegasta hlaupið var utanvegahlaup vestur á Þingeyri árið 2013. „Við æskuvinkonurnar skráðum okkur svo félagsskapurinn var frábær og hlaupaleiðin falleg. Hlaupið er 24 km og þegar við komum í mark þá vorum við mjög ánægðar með okkur að hafa klárað hlaupið á nýju vallarmeti, það er að segja að koma síðastar í mark. Við tókum sem sagt rjómann af þessu öllu saman og vorum ekki að keppa við neinn tíma heldur að njóta útsýnisins og spjalla saman um daginn og veginn. Við tókum þá ákvörðun þegar við lögðum upp í þessa ferð að hafa gaman af hlaupinu.“

ÞJÓNUSTUFULLTRÚI Á SKRIFSTOFU Securitas óskar að ráða jákvæðum og áreiðanlegan þjónustufulltrúa í framtíðarstarf á skrifstofu okkar á Reykjanesi. Um er að ræða skemmtilegt og krefjandi starf í líflegu umhverfi. Securitas er með um 500 starfsmenn þar af um 50 á Reykjanesi. Útibúið er í örum vexti og mun opna síðar á árinu á nýjum stað að Iðavöllum 13 í Reykjanesbæ. Við leitum að góðum liðsmanni með jákvætt hugarfar og smitandi metnað sem er tilbúinn að leggja sig fram um að vinna að góðum starfsanda og veita frábæra þjónustu. Stutt lýsing á starfi: Í starfinu reynir á lipurð í samskiptum, þjónustulund og þekking á þjónustu sem Securitas Reykjanesi veitir. Starfið felst í almennri aðstoð við innri og ytri viðskiptavini en einnig: · Almenn símsvörun, tölvupóstsamskipti og aðstoð við viðskiptavini sem koma í útibúið · Aðstoð við skráningu, vinnu og verkferla vegna tæknimanna · Aðstoð við allar deildir útibúsins

Hæfniskröfur: · Stúdentspróf og/eða reynsla af sambærilegu starfi · Framúrskarandi þjónustulund · Mikil hæfni í samskiptum, metnaður fyrir jákvæðri lausn ágreiningsmála · Þekking á Navision og Excel er kostur · Eiga gott með að tjá sig í ræðu og riti Um er að ræða 100% starf á dagvinnutíma. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en um miðjan ágúst. Nánari upplýsingar gefur Kristinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Securitas Reykjanesi, kristinn@securitas.is eða í síma 580 7200. Umsóknarfrestur er til og með 10. júní nk.

SECURITAS REYKJANESI

HAFNARGÖTU 60, 230 REYKJANESBÆ, S. 580 7000


Mundi

Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

twitter.com/vikurfrettir

instagram.com/vikurfrettir

Er ekki hægt að fá Hjólakraft til að hjóla í lífeyrissjóðina fyrir Reykjanesbæ?

Frelsið það besta við hjólreiðar ●●Samtökin Hjólakraftur bjóða upp ● á æfingar í Sandgerði, Garði og Grindavík svæðinu, í Grindavík, Selfossi og á Egilsstöðum.

„Þetta gengur út á það að fá krakka út að leika. Að reyna að nýta þessa orku sem fólk á til að gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggilegt,“ segir Þorvaldur Daníelsson, frumkvöðull hjá Hjólakrafti. Hann stofnaði samtökin Hjólakraft fyrir nokkrum árum og býður nú upp á reiðhjólaæfingar fyrir ungmenni á nokkrum stöðum á landinu. Víkurfréttir hittu hressan hóp hjólreiðagarpa úr Sandgerði og Garði á dögunum en sameiginlegar æfingar fyrir elstu nemendur skóla bæjarfélaganna hófust fyrr í vor. Þorvaldur keyrir á milli bæjarfélaga á æfingar og hefur með sér nokkur „racer“ hjól sem krakkarnir hjóla á. Starfið hjá Hjólakrafti hefur vaxið á undanförnum mánuðum og er núna boðið upp á æfingar á höfuðborgar-

Hjólin verkfæri til að komast úr hjólförunum Þorvaldur segir starfið hjá Hjólakrafti ekki aðeins ganga út á það að hjóla, heldur séu hjólin verkfæri fyrir svo margt annað. „Hjólreiðarnar eru góðar til að koma sér upp úr hjólförunum sem fólk er stundum fast í. Við erum öll með einhvers konar lífsmynstur og stundum þarf að brjóta það upp. Ég held að hjólið sé mjög heppileg leið til þess. Svo erum við að spjalla um daginn og veginn, eins og gengur,“ segir hann. Það kostar sitt að fara af stað með frumkvöðlastarf eins og Hjólakraft enda töluvert af búnaði sem til þarf. Þorvaldur segir það ganga upp og

Þorvaldur ferðast á milli bæjarfélaga og heldur æfingar. Hann tekur reiðhjól fyrir hjólreiðafólkið.

MOWER sláttuvélar

með Briggs&Stratton bensínmótor

20%

MOWER CJ18

Sláttubreidd 46cm. BS 3,5hp 42.990 mótor, rúmtak 158 CC, skurðarvídd 46cm/18”. Safnpoki að aftan 60 L, skurðhæð og staða 25-85mm/8

Hópur nemenda úr Sandgerði og Garði að gear sig tilbúin fyrir hjólaferð að Hvalsneskirkju.

ofan að fjármagna starfsemina. „Þetta kemst langt á góðum vilja. Þetta er eins og annað frumkvöðlastarf, maður getur ekki verið á launum framan af. Ég hef þó fulla trú á að þetta gangi upp og treysti á guð og lukkuna.“ Hjólakraftur fjölmennir í WOW Cyclothon Hjólreiðakappar úr Hjólakrafti hafa verið duglegir að taka þátt í hjólreiðakeppnum og er stefnan tekin á að allt að því 18 lið frá Hjólakrafti taki þátt í WOW Cyclothon í sumar. Þorvaldur kveðst þó hafa verið í bjartsýniskasti þegar hann skráði þann fjölda liða til keppni en allt stefnir í að liðin frá Hjólakrafti verði 15 til 18 og í liðunum verða bæði börn að hjóla og fullorðnir fylgdarmenn. „Það eru þó einhverjir foreldrar orðnir leiðir á grámanum hérna heima og vilja fara til útlanda í sólina og eru jafnvel búnir að panta ferðir á sama tíma og WOW Cyclothon verður haldið. Ég hef heyrt af krökkum sem beita öllum bellibrögðum heima til að fá fríinu hnikað,“ segir Þorvaldur léttur í lund. Þorvaldur hjólar töluvert í starfi sínu sem hjólaþjálfari hjá Hjólakrafti og því var ekki úr vegi að spyrja hann hvað það er við hjólreiðarnar sem er svo skemmtilegt. „Það er þessi frelsistilfinning. Maður er svo ótrúlega frjáls á hjólinu og engum háður,“ segir Þorvaldur og bætir við að hann hafi lesið það einhvern tíma í bók að ástæðan fyrir því að börn hafi svo gaman af hjólreiðum sé sú að á hjólinu fari þau í fyrsta sinn ein í burtu úr augsýn foreldra sinna. „Um leið og þau eru búin að ná valdi á þessu geta þau farið fyrir húshornið og látið sig pínu hverfa. Það er sú tilfinning sem við sækjum öll í á einhverjum tímapunkti. Það er það sem gefur þessu gildi.“

Vilja hjóla sem lengst á æfingum ■■Elísabet Helga Jónsdóttir er nemendi í 9. bekk í Grunnskóla Sandgerðis og mikill hjólagarpur. Hún mætir á æfingar hjá Hjólakrafti og hefur gaman af og segir það heillandi við hjólreiðarnar að upplifa náttúruna á annan hátt en gangandi. Hún hjólaði ekki mikið áður en er nú farin að hjóla reglulega. Hún segir það misjafnt hversu langt hópurinn hjólar á æfingum. „Það fer eftir því hvað við höfum mikinn tíma og hvert við viljum hjóla. Við reynum að hafa æfingarnar sem lengstar, eins og um daginn þegar við hjóluðum 30 kílómetra,“ segir hún. Í sumar ætlar Elísabet að taka þátt í mótum og stefnir meðal annars að því að hjóla Gullhringinn sem er keppni sem hefst á Laugarvatni.

AFSLÁTT UR

34.392

CE/GS VOTTUN

66.990

53.592 MOWER CJ20 Sláttuvél m/drifi, BS 6,0 hp mótor,

sláttubreidd 51cm. Rúmtak 190 CC, skurðarvídd 51cm/20”, sjálfknúin 3,6 km/h, safnpoki að aftan 65 L, hliðar útskilun, skurðhæð og staða 25-75mm/8

MOWER CJ21

Sláttuvél 53cm m/drifi, BS 6,0 hp mótor, 53cm serían. Vél BS675EX með Ready Start Briggs & Stratton vél, bensín, rúmtak 190 CC, skurðarvídd 53cm/21”, sjálfknúin 3,4 km/h. Safnpoki að aftan 65 L, hliðar útskilun Skurðhæð og staða 25-80mm/8

69.990

55.992

21.990

17.592 MOWER sláttuorf 0,7KW 31CC Skurðarbreidd 255 > 480mm

Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ

Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

Tvö hundruð konur gengu saman ■■Kvenfélagskonur úr Kvenfélagasambandi Gullbringu- og Kjósarsýslu komu saman á dögunum og gengu saman í Grindavík. Um 200 konur mættu og gengu saman léttan hring. Tíu kvenfélög og gestir þeirra sameinuðust í göngunni og kynntu bæjarfélagið. Verslanir og fyrirtæki voru með opið fram á kvöld og var mikil ánægja með það innan hópsins. Eftir gönguna fór hópurinn saman í Gjánna þar sem boðið var upp á súpu, kaffi og fróðleik.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook