Skip to main content

22.tbl

Page 1

Víkurfréttir

Grundarvegur 23, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is

Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001

Yfir 98.000 heimsóknir á vf.is

V

efur Víkurfrétta nýtur vaxandi vinsælda. Ein mesta aðsókn í sögu vf.is var í síðustu viku þegar yfir 98 þús. heimsóknir voru inn á síðuna. Daglega eru um 5-7 þús. gestir sem sækja fréttir á vf.is og þeir fara að jafnaði tvisvar inn á síðuna á hverjum degi sem gerir um 10 til 15 þús. innlit. Vefur Víkurfrétta náði nýjum hæðum í þarsíðustu viku þegar tæplega 33.500 gestir (tölvur) heimsóttu vefinn í þeirri viku og þessir notendur heimsóttu síðuna rúmlega 98.000 sinnum. Í þeirri viku var mikil

umræða um ljósmynd af Dorrit forsetafrú sem tengdist Víkurfréttum en einnig var fjöldi fólks sem skoðaði myndir af öryggislendingu flugvélar Icelandair sem skömmu áður hafði misst eitt hjól undan vélinni í flugtaki. Þá var fjöldi annarra frétta sem vakti mikla athygli, eins og af manninum sem sofnaði ölvunarsvefni inni í ísskáp eftir að hann hafði farið húsavillt. Innan tíðar mun vefurinn fá útlitsbreytingu og verður tekið upp samræmt útlit fyrir alla vefi Víkurfrétta.

vf.is

FIMMTUdagurinn 31. MAÍ 2012 • 22. tölubl að • 33. árgangur

Sólsetur á Garðskaga

14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011

spennandi uknattleikir

Sólarlagið hefur verið glæsilegt við Garðskagavita síðustu kvöld. Meðfylgjandi mynd tók Hilmar Bragi á dögunum.

Saltfisksúpa í Grindavík N

ehf.

Reykjanesbær ur: vf@vf.is a daga kl. 09-17

to.

kosti með gen.

endur vænn er ari

orthern Light Inn hótelið í Grindavík ætlar bjóða öllum gestum á Bryggjuballinu á Sjóaranum síkáta í Grindavík upp á heita súpu á föstudagskvöldinu upp úr kl. 23:00. Að sögn Jóhanns Hallgrímssonar veitingastjóra verður 300 lítra pottur notaður til verksins. Að sjálfsögðu verður boðið upp á SALTFISKSÚPU.

„Hermann Waldorf gefur fiskinn og ég sé um að elda. Þetta verður dúndur góð súpa sem á eftir að fara vel ofan í mannskapinn," segir Jóhann. Hann hefur gengið með þessa hugmynd lengi í maganum en ákvað núna að láta slag standa með góðra manna hjálp, ekki síst starfsfólksins á Northern Light Inn.

Heimsfrægð handan við hornið - sjá nánar á bls. 23

Þ Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan-

Opið allan sólarhringinn

Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæ s. 420 5000 - Fax: 421 5946

TM

Fitjum NÝ T T

au Nanna Bryndís HilmarsMorgu dóttir söngkona og Brynjar nver Leifsson gítarleikari hljómmatseð ðarill sveitarinnar Of Monsters Aðeins úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik ogAnd staðan í viðureign liðanna er 2:2. íb iá Subway oð Skrúðgangan Gaman saman sem fram fór á dögunum er Men eru orðin þrælvön viðtölum Fitjumárlegur viðOddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni og kipptu sér lítið upp við það þó burður í samstarfsverkefni leikskólans Gimli og Nesvalla. Börnin á í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0 útsendari Víkurfrétta hafi klófest Gimli sækja þá vini sína á Nesvelli og ganga saman í skrúðgarðinn í fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar þauháspennuleiki. í Leifsstöð á dögunum. ViðNjarðvík þar sem þau syngja saman og fá sér hressingu. kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB talið er íí miðopnu VF í dag.

HÁGÆÐASTEYPA FRÁ BORG

– TIL AFHENDINGAR STRAX! (FRAMLEITT SAMKVÆMT STÖÐLUM ÍST EN 206-1, ÍST EN 197-1, ÍST EN 12620)

VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND | www.flytjandi.is | sími mi 525 5 7700 7 |

Kaplahrauni 9b - 220 Hafnarfirði - Sími: 414 7777

rðarbraut 13 @heklakef.is

Easy ÞvoTTaEfni

Easy MýkingarEfni

aloE vEra

2l


2

FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR

SKÓLASLIT Skólaslit verða í Stapa, Hljómahöllinni, í dag fimmtudaginn 31. maí kl.18.00 Afhending áfangaprófsskírteina og vitnisburðar vetrarins. Íslandsbanki veitir hin árlegu „Hvatningarverðlaun“ Fjölbreytt tónlistaratriði Allir velkomnir

Vogamenn mótmæla hækkun launa framkvæmdastjóra Kölku

B

æjarráð Sveitarfélagsins Voga mótmælir hækkun launa framkvæmdastjóra Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja og Kölku, þar sem hækkunin samræmist ekki almennum launahækkunum hjá sveitarfélögunum. Hörður Harðarson, bæjarfulltrúi í Vogum, bar málið einnig upp á síðasta fundi bæjarstjórnar Voga, þar sem hann hvatti bæjarfulltrúa

til að taka undir bókun bæjarráðs varðandi launamál framkvæmdastjórans. Var það samþykkt samhljóma í bæjarstjórninni. Bæjarráð Voga harmaði einnig á sínum fundi að hvorki aðal- né varafulltrúi sveitarfélagsins í stjórn SS hafi ekki mætt á fund stjórnarinnar. Það var einnig áréttað á fundi bæjarstjórnarinnar í síðustu viku. n

Skólastjóri

ATVINNA Leikskólinn Tjarnarsel auglýsir eftir leikskólakennurum í 100% stöðu. Þeir þurfa að geta hafið störf eigi síðar en 23. júlí nk. Einnig kemur til greina að ráða starfsmenn með aðra menntun eða með reynslu af að starfa í leikskóla. Lögð er áhersla á fjölbreytta starfs- og kennsluhætti í Tjarnarseli og megin áherslur eru á mál og læsi, lýðræði og mannréttindi, umhverfismennt og útinám. Umsóknarfrestur er til 19. júní nk., sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf. Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum. Nánari upplýsingar veitir leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóri Tjarnarsels og einnig má nálgast upplýsingar um leikskólann, á vefsíðunni, www.tjarnarsel.is.

DUUSHÚS

SJÓMANNASÝNINGAR

Í tilefni af 10 ára afmæli Duushúsa og Bátasafns Gríms Karlssonar verða nýjar sýningar opnaðar um sjómannahelgina í öllum sölum Duushúsa sem allar tengjast sjómönnum eða sjómennsku. Eftirtaldar sýningar verða opnaðar laugardaginn 2. júní kl. 14:00. Allir velkomnir. Bátasalur Sýning á bátalíkönum eftir skipstjórann Grím Karlsson og tréskúlptúrum eftir skipstjórann Guðmund Garðarsson. Listasalur Millilandamyndir. Sýning á verkum úr einkasafni Matthíasar Matthíassonar, skipstjóra og Katrínar M. Ólafsdóttur. Einnig til sýnis skipalíkön af Fellunum í eigu Samskipa. Gryfjan Á vertíð. Ný sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar sem segir frá sögu svæðisins fram til 1940. Bíósalur Verk úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar sem tengjast sjónum . Einnig er til sýnis stórt líkan af Skipasmíðastöð Njarðvíkur.

›› FRÉTTIR ‹‹ Gleymdu rúmlega 200 þúsund í flugvél

T

íu þúsund krónur í norskum seðlum, sem samsvarar um tvö hundruð og fimmtán þúsundum íslenskra króna, fundust þegar verið var að þrífa eina af flugvélum Iceland Express nýverið. Fundust fjármunirnir við eitt sæti flugvélarinnar. Lögreglunni á Suðurnesjum var gert viðvart um fundinn og eru peningarnir nú í vörslu hennar.

Hrakti innbrotsþjófa á flótta

Einn af eigendum Twitter og forseti Íslands á Ásbrú H T veir kunnir bandarískir fjárfestar sem eiga stóra hluti í fyrirtækjum á borð við Twitter, Tumblr, Foursquare og Zynga (sem framleiðir m.a. Farmvilleleikina) eru staddir hér á landi og tóku þátt í ráðstefnu sem fram fór á Ásbrú í Reykjanesbæ í gær. Meðal ræðumanna í gær var einnig forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson en hann hefur alla tíð sýnt uppbyggingunni á Ásbrú mikinn áhuga. Ráðstefnan, sem nefnist Start-up Iceland, var skipulögð af hópi sjálfboðaliða undir forystu indverska fjárfestisins Bala Kamallakharan, en það er í gegnum persónuleg tengsl hans að þessir þekktu fjárfestar koma til landsins til að taka þátt í ráðstefnunni. Brad Burnham er annar stofnenda fjárfestingafyrirtækisins Union Square Ventures sem sérhæfir sig í fjárfestingum í ungum netfyrirtækjum. Fyrirtæki hans var á meðal fyrstu fjárfestanna í samfélagsmiðlinum Twitter, sem tæplega 150 milljón manna nota í dag. Burnham situr einnig í stjórn örbloggsíðunnar Tumblr sem nýtur

vaxandi vinsælda, meðal annars á Íslandi. Í för með honum var annar kunnur bandarískur fjárfestir, Brad Feld. Feld er líklega þekktastur fyrir að hafa stofnað örfjárfestingarbúðirnar TechStars, en raunveruleikaþættir þar sem fylgst er með ungum frumkvöðlum taka þátt í búðunum hafa verið sýndir á sjónvarpsstöðinni Bloomberg. Brad Feld seldi eitt af fyrstu fyrirtækjunum sem hann fjárfesti í til Google og var síðan á meðal fyrstu fjárfestanna í leikjafyrirtækinu Zynga. En Zynga er þekkt fyrir Facebook-leiki eins og Farmville og Zynga-poker. 400 manns sóttu ráðstefnuna. Ráðstefnan var hugsað sem vettvangur til að kynnast því sem er að gerast í frumkvöðlafræðum, tækni og viðskiptum í dag og mynda tengsl við innlenda og erlenda frumkvöðla og fjárfesta. Markmið skipuleggjendanna er að gera Startup Iceland ráðstefnuna að árlegum viðburði á Íslandi (ekki ósvipað Icelandic Airwaves) og fá áhrifamikla fjárfesta og frumkvöðla í tæknigeiranum til að koma til Íslands og ræða saman um það nýjasta sem er að gerast í þessum heimi.

Brad Burnham á tali við Bala Kamallakharan sem stofnaði til Startup Iceland.

úsráðanda í Reykjanesbæ brá heldur í brún þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins. Þar voru þá fyrir í forstofunni tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna þegar þeir urðu húsráðandans varir og hurfu út í nóttina. Annar þeirra reyndist hafa farið inn um baðglugga við hlið forstofunnar og var að hleypa hinum inn um útidyrahurðina, þegar að þeim var komið. Þeir höfðu ekki haft ráðrúm til athafna áður en þeir hröktust á brott.

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af á hlaupum

L

ögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af tveimur ökumönnum sem grunaðir voru um ölvun við akstur. Annar þeirra sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu, en endaði aksturinn með því að keyra á gangbrautarmerki. Hann stökk út úr bílnum og reyndi að stinga lögreglumennina af, en var handtekinn og færður á lögreglustöð. Umræddir ökumenn voru báðir sviptir ökuréttindum til bráðabirgða.

Laust starf hjá Víkurfréttum V

íkurfréttir óska eftir að ráða hressan og duglegan einstakling í auglýsingadeild blaðsins. Um er að ræða fullt starf. Viðkomandi þarf að hafa þjónustulund og vera góður í mannlegum samskiptum en jafnframt að vera skipulagður og hafa aga, hörku og dugnað til að geta selt auglýsingar í miðla fyrirtækisins. Góð íslenskukunnátta er mikilvæg og kunnátta á helstu tölvuforrit sem eru nauðsynleg í samskiptum og skipulagi er nauðsyn. Umsóknir er tilgreini allar helstu upplýsingar umsækjanda sendist á Pál Ketilsson, ritstjóra, á pket@ vf.is.

Höfuðstöðvar Víkurfrétta flytja í Krossmóa 4 í næstu viku.


3

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012

PIPAR\TBWA

•

SÍA

Umsóknarfrestur til 6. JÚNÍ

NÝTT TÆKIFÆRI TIL NÁMS Keilir er alhliða menntafyrirtæki með aðsetur á Ásbrú í Reykjanesbæ sem býður vandað nám með áherslu á nýstárlega kennsluhætti og fyrsta flokks aðstöðu. Innan Keilis eru fjögur sérhæfð námssvið; Flugakademía, Íþróttaakademía, Tæknifræði og Háskólabrú. Komdu í nútímalegt, metnaðarfullt og skemmtilegt nám. Komdu í Keili!

HÁSKÓLABRÚ Á Háskólabrú er boðið upp á nám fyrir einstaklinga sem hafa ekki lokið stúdentsprófi. Að námi loknu uppfylla nemendur inntökuskilyrði í háskóla hérlendis og erlendis. Háskólabrú er skipulögð í samstarfi við Háskóla Íslands.

NÁMSFRAMBOÐ

FÉLAGSVÍSINDA- OG LAGADEILD HUGVÍSINDADEILD VIÐSKIPTA- OG HAGFRÆÐIDEILD VERK- OG RAUNVÍSINDADEILD

Kennsla við Háskólabrú fer fram í staðnámi á Ásbrú í Reykjanesbæ og á Akureyri í samstarfi við SÍMEY.

KEILIR

ÁSBRÚ

578 4000

keilir.net


4

FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

›› Menning og mannlíf:

Nýjar sýningar í öllum sölum Duushúsa

N

ú eru tíu ár liðin frá því að Duushúsin, menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar opnuðu með sýningunni Bátasafn Gríms Karlssonar. Bátaflotinn samanstóð þá af 59 líkönum en er nú kominn yfir eitt hundrað og alltaf ný að bætast við. Sýningarsölunum hefur einnig fjölgað í húsinu og eru salirnir nú orðnir fjórir og þar má sjá mismunandi sýningar safnanna í bænum, listasafnsins og byggðasafnsins. Í tilefni þessara tímamóta verða opnaðar nýjar sýningar, sem allar tengjast sjómönnum eða sjómennsku, í öllum sölum Duushúsa laugardaginn 2. júní kl. 14.00 og eru allir bæjarbúar velkomnir að koma og njóta. Bátasalur Sýning á 100 bátalíkönum eftir skipstjórann Grím Karlsson og tréskúlptúrum eftir skipstjórann Guðmund Garðarsson. Báðir þessir skipstjórar hafa fundið sér nýjan vettvang eftir að þeir hættu til sjós, annar smíðar bátalíkön en hinn sker út myndir í rekavið.

Listasalur Millilandamyndir, sýning á verkum úr einkasafni Matthíasar Matthíassonar, fyrrverandi skipstjóra á millilandaskipum og Katrínar M. Ólafsdóttur eiginkonu hans. Einnig eru til sýnis gömul skipalíkön af Fellunum í eigu Samskipa. Gryfjan Á vertíð. Ný sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar sem segir sögu svæðisins fram til 1940. Bíósalur Blönduð sýning sögu og listar: Verk úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar sem tengjast sjónum, ljósmyndasýning af nýjustu Fellunum hjá Samskip, stórt líkan af Skipasmíðastöð Njarðvíkur og myndir í tengslum við það og síðast en ekki síst nokkur bátalíkön sem velunnarar Bátasafnsins munu afhenda í tilefni sjómannadagsins. Að lokum er minnt á árlega sjómannamessu sem haldin er í Bíósal Duushúsa á sunnudaginn kl. 11.00 í samstarfi við prest Ytri-Njarðvíkurkirkju og fleiri aðila.

Kjartan Þór Eiríksson og Guðmundur Sigþórsson undirrita samninga um húsnæði fyrir Málmey á Ásbrú.

Hátæknifyrirtækið Málmey flytur starfsemi sína að Ásbrú H

átæknifyrirtækið Málmey hefur ákveðið að flytja starfsemi sína að Ásbrú í Reykjanesbæ og verður þar hluti af sívaxandi samfélagi frumkvöðla, fræða og atvinnulífs sem telur yfir 80 fyrirtæki og stofnanir, 500 starfsmenn, 600 námsmenn og 1.800 íbúa. Málmey hefur yfir reynslumiklu og hæfu starfsfólki að ráða þegar kemur að hönnun og smíði á vélbúnaði tengdum sjávarútvegi. Verkstæði fyrirtækisins á Ásbrú verður búið fullkomnum tækjum sem gerir því kleift að takast á við fjölbreytt verkefni tengd málmsmíði auk smíða og þróunar á tæknilausnum fyrir sjávarútveg. Á meðal viðskiptavina Málmeyjar má nefna Samherja, Marel, Kötlu Seafood, Nesfisk, Icegroup, Haustak og fleiri sjávarútvegsfyrirtæki. Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar: „Á Ásbrú hefur mótast einstakt umhverfi fyrir skapandi og kraftmikil fyrirtæki. Við fögnum því að fá Málmey inn í þennan öfluga hóp og sjáum mikil tækifæri fyrir fleiri tæknifyrirtæki á Ásbrú. Málmey mun geta nýtt sér Mekkatrónik tæknifræðinám- og rannsóknir menntafyrirtækisins Keilis og þá rannsóknar- og smiðjuaðstöðu á Ásbrú sem þjónar jafnt stórum sem smáum tæknifyrirtækjum“ segir Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar sem hefur leitt uppbyggingu Ásbrúar undanfarin ár.

Guðmundur Sigþórsson, framkvæmdastjóri Málmeyjar: „Við erum mjög spenntir fyrir því að flytja á Ásbrú og taka þátt í þeirri uppbyggingu sem stendur þar yfir. Málmey stendur á ákveðnum tímamótum og stefnir að auknum vexti á komandi árum. Við teljum okkur vera vel staðsetta á Ásbrú til að fylgja þeim vexti eftir. Þar skiptir m.a. máli góð tenging við tækniskóla Keilis og mun betri aðstaða til að mæta auknum umsvifum fyrirtækisins. Það kom okkur þægilega á óvart að starfsmenn okkar tóku mjög vel í þessar breytingar og styðja við bakið á okkur í þeim. Við vonumst ennfremur til þess að fá til liðs við okkur starfsmenn af Suðurnesjum því verkefnastaða fyrirtækisins kallar á talsverða fjölgun starfsmanna“ segir Guðmundur Sigþórsson, framkvæmdastjóri Málmeyjar. Um Málmey: Málmey var stofnað af Gylfa Þór Guðlaugssyni sem er hönnuður fyrirtækisins og aðaleigandi. Gylfi hefur starfað við smíðar og hönnun vélbúnaðar í yfir 20 ár. Hjá Málmey starfa 15 manns en fyrirtækið sérhæfir sig í smíði á tæknilausnum fyrir fiskvinnslur. Um Ásbrú: Ásbrú er einstakt samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs. Ásbrú er heimili námsmanna, frumkvöðla og fyrirtækja á sviði tækni, heilsu, flutninga og skapandi greina.

Eigum að heimasækja hvert annað á bæjarhátíðunum á Reykjanesi - Sjóarinn síkáti í Grindavík hefst í kvöld. Öll helgin undirlögð af viðburðum og uppákomum fyrir alla fjölskylduna. „Ég fór á Ljósanótt í Reykjanesbæ og Sólstöðuhátíðina í Garðinum í fyrra og það var virkilega skemmtilegt og gaman að sjá hversu bæjarhátíðarnar eru ólíkar hver annarri. Þær hafa allar sinn sjarma. Við vonumst til þess að sjá sem flesta nágranna okkar á Reykjanesi á Sjóaranum síkáta í Grindavík, við eigum að nýta tækifærið á þessum bæjarhátíðum okkar og heimsækja hvert annað hér á Reykjanesi,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, upplýsinga- og þróunarfulltrúi Grindavíkurbæjar sem stendur í ströngu þessa dagana við að undirbúa Sjóarann síkáta ásamt Kristni Reimarssyni frístunda- og menningarfulltrúa. „Eftir að hafa starfað við þetta nýja tjaldsvæðisins sem opnað var undanfarin ár finnst mér gaman að 2009 og auknu samstarfi við Bláa heyra frá sjómönnunum okkar hér lónið er Grindavík að stimpla sig á í Grindavík hversu ánægðir þeir eru kortið sem öflugur ferðamannabær. með að sjómannadagshelgin, sem Segja má að bæjarhátíðin Sjóarinn er til heiðurs þeim og fjölskyldum síkáti marki upphafið á skemmtiþeirra, skuli vera mikill hátíðis- legu sumri hér suður með sjó. viðburður í okkar litla samfélagi Mikið verður lagt í Sjóarann síkáta í og sífellt meiri metnaður lagður ár og verður enn meira gert til þess í hana. Hér er allt undirlagt um að gera bæjarhátíðina að sannkallsjómannadagshelgina og sjómenn- aðri fjölskylduskemmtun þar sem irnir ásamt fjölskyldum sínum fara Reyknesingar og landsmenn allir þar fremstir í flokki við að skreyta eru hvattir til þess að heimsækja bæinn og halda uppi fjörinu,“ segir alvöru sjávarpláss en Grindavík er í dag stærsti útgerðarbærinn á Þorsteinn. Grindavík er eitthvert öflugasta landsbyggðinni. bæjarfélag landsins og með tilkomu „Sjóarinn síkáti hefur skipað sér

sess sem ein öflugasta bæjarhátíð landsins og má segja að við séum fyrst á dagskrá í sumarskemmtunum. Hér eru ljósmynda-, myndlista- og grjótlistaverkssýningar með Grindvíkingum alla vikuna.

Upphitun hefst á fimmtudagskvöldinu með tónleikum Ragga Bjarna á Salthúsinu og svo verður líf og fjör á föstudagskvöldinu með götugrillum um allan bæ, litaskrúðgöngu og bryggjuballi með Páli Óskari og

fleiri skemmtikröftum. Á laugardeginum er bærinn undirlagður af ýmsum skemmtunum fyrir alla fjölskylduna. Má þar nefna ratleik, leiktæki, vandaða skemmtidagskrá fyrir börnin, Brúðubíllinn mætir fyrir þau yngstu, svo fátt eitt sé talið. Foreldrar og fullorðnir fá sinn skammt en þarna verða ýmsar uppákomur og sýningar. Um kvöldið verða tónleikar og böll á skemmtistöðum bæjarins. Á sunnudeginum er hápunkturinn, hefðbundin hátíðahöld á vegum Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur með heiðrunum og verðlaunaafhendingum og svo verða stórtónleikar með hljómsveitinni Valdimar í íþróttahúsinu um kvöldið. Þessa helgi verður einnig sundmót, fótboltamót, golfmót, keppt í Íslandsmóti í sjómanni, netaviðburðum, kerlingahlaupi og fleira og fleira," segir Þorsteinn fullur tillhlökkunar. n


vikurfrettir:Layout 1

23.5.2012

14:26

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012

Page 1

SJÓARINN SÍKÁTI Í GRINDAVÍK 1.-3. JÚNÍ

Fjölbreytt og glæsileg

fjölskylduhátíð alla sjómannadagshelgina!

Heiðursviðurkenningar, kappróður, koddaslagur. Vönduð skemmtidagskrá fyrir börnin, leiktæki. Íslandsmót í sjómanni, kerlingahlaupi og kraftakeppni. Páll Óskar, Geirmundur, Hjálmar, Valdimar, Ingó Veðurguð, Hreimur, Skítamórall, Andrea Gylfa, Helgi Björns og Raggi Bjarna og margir fleiri. Útvarp Sjóarinn síkáti frá fimmtudegi til sunnudags á FM 101,5 og á sjoarinnsikati.is Nýtt og glæsilegt tjaldsvæði.

Sjá nánar á sjoarinnsikati.is

Verið velkomin!

5


6

FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

vf.is

Útgefandi: Afgreiðsla og ritstjórn: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: Blaðamaður: Auglýsingadeild: Umbrot og hönnun: Auglýsingagerð: Afgreiðsla: Prentvinnsla: Upplag: Dreifing: Dagleg stafræn útgáfa:

Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

Leiðari Víkurfrétta

Hergnýr og frumkvöðlastarf á Ásbrú Gamla varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli sem nú er nefnt Ásbrú hefur svo sannarlega gengið í endurnýjun lífdaga ef svo má segja. Nú er það orðið háskólasetur með stofnun Keilis fyrir fimm árum síðan en afmælinu var fagnað fyrir nokkrum dögum. En Ásbrú er ekki bara háskólabær því framtíðin þar virðist einnig liggja í uppbyggingu nýrra atvinnutækifæra á sviði nýsköpunar. Í gær fór fram stórmerkileg ráðstefna sem fjallaði um frumkvöðlastarf og sprotafyrirtæki með þátttöku heimsþekktra aðila í þeim geira. Í viðtali í VF í síðustu viku sagði Guðmundur Bjarni Sigurðsson hjá sprotafyrirtækinu Kosmos og Kaos að það væri ýmislegt hægt að gera „og meira að segja í Keflavík“ eins og hann orðaði það en hann stofnaði fyrirtækið upp úr engu fyrir tveimur árum síðan og kom því á framfæri um allan heim með opnun vefsíðu. Þannig hafi boltinn byrjað að rúlla. Góður kunningi Guðmundar, Bala Kamallakharan, indverskur fjárfestir og stofnandi Startup Iceland, sagði að Ísland væri frábær staður til að hleypa af stokkunum nýjum hugmyndum og hefði framúrskarandi innviði, sögu um nýsköpun og frumkvöðlastarf, og

ekki síst, ungt og menntað fólk. Ísland væri lítið og þar af leiðandi styttri leiðir og hraðari þróun á vöru, sem væri einstakur eiginleiki. Þetta eru sannarlega jákvæð ummæli og var því vel við hæfi að hefja þessa ráðstefnu, sem kallast Startup Iceland, með spurningunni: „Hvernig sköpum við þúsund ný störf á Suðurnesjum?“ Aðstandendur ráðstefnunnar sögðu að Ísland hefði mikla nýsköpunar- og frumkvöðlamenningu og væri þannig í stakk búið að verða áhrifamikill þátttakandi í nýsköpun á heimsvísu. Það hefur verið bent á það að lykilorð í atvinnuuppbyggingu þurfi ekki endilega að vera stóriðja þó vissulega sé erfitt að horfa framhjá þeirri staðreynd að eitt álver skapar nánast á einu bretti jafn mörg störf og frumkvöðlaráðstefnan ætlaði að finna eða þúsund störf. En góðir fjárfestar reyna að hafa fleiri egg í körfunni og

Páll Ketilsson, ritstjóri því er það mikið ánægjuefni fyrir okkur Suðurnesjamenn að frumkvöðlastarf sem meira að segja fyrir þessa ráðstefnu, hafði fengið gott start á Ásbrú, fái enn meiri byr í seglin. Á því er mikil þörf. Þegar undirbúningur fyrir þessa stóru frumkvöðlaráðstefnu stóð yfir þurftu Suðurnesjamenn á stundum að loka gluggum þegar herþotur Nato flugu yfir í æfingaútköllum en 170 manna sveit frá bandaríska flughernum hefur að undanförnu sinnt loftrýmisgæslu við Ísland með aðsetur á sínum gamla vinnustað. Heimsókn amerísku flugmannanna er þáttur í áætlun Nato um loftrýmisgæslu á Íslandi en um það var samið þegar herinn fór 2006 að flugsveitir myndu hafa hér viðdvöl í nokkrar vikur á ári og stunda æfingaflug og fara í eftirlitsflug. Þó svo varla sé hægt að tala um að hernaðarleg ógn steðji að Íslandi þá er það talið nauðsynlegt að sinna öryggismálum landsins á þennan hátt. Með æfingunum í loftrýmiseftirliti Nato kynnast flugherir bandamanna aðstæðum og staðháttum á Íslandi sem er nauðsynlegt til að fylla í það tómarúm sem skapaðist með brottför varnarliðsins. Þó engin sé ógnin núna þá er staðsetning landsins hér á norðurslóðum á milli heimsálfa þannig að nauðsyn er að hafa öryggi á oddinum.

Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 7. júní 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is

›› Arctic Horses í Grindavík:

Fólk oft í geðshræringu yfir fegurðinni hérna

A Jóhanna Harðardóttir eigandi hestaleigunnar Arctic Horses í Grindavík.

GARÐAÚÐUN co/ Björn Víkingur og Elín

Úðum gegn: Roðamaur, kóngulóm, lirfum og lús í trjágróðri, illgresi í grasflötum (fíflum) og fl. Fullgild réttindi og mikil reynsla! Garðaúðun Suðurnesja efh. 822-3577 · 699-5571 · 421-5571 netfang: bvikingur@visir.is

HJARTAHEILL ÞAKKAR GÓÐAR MÓTTÖKUR Á SUÐURNESJUM Í MAÍ Gönguhópur í Reykjanesbæ! Minnum á gönguna frá Nesvöllum alla mánudaga og miðvikudaga kl. 16:45.

rctic Horses í Grindavík er hestaleiga sem aðallega byggist upp á ferðaþjónustu. „Við reynum að vera lítil og persónuleg og er ekki mikið um stóra hópa hjá okkur,“ segir Jóhanna Harðardóttir eigandi hestaleigunnar en mikið af pörum og litlum fjölskyldum sækja til hennar. Jóhanna er yfirleitt ein að sjá um útreiðartúra en annars stendur fjölskylda hennar einnig með henni í rekstrinum á hestaleigunni enda er þetta fjölskylduáhugamálið að hennar sögn. Jóhanna tók við rekstrinum af Helga Einari Harðarsyni en hún hafði verið viðloðandi reksturinn hjá honum í nokkur ár. Vinsælt er að fara svokallaðan Hópshring þar sem Jóhanna segir mikið að sjá, m.a. gömul skipsflök og fallegt landslag. Jóhanna segir fjölmarga erlenda ferðamenn sækja

í ferðir hjá henni og sér hún að fólk er að tengja saman heimsókn í Bláa lónið og útreiðatúra. Jóhanna segir magnað að upplifa Ísland í gegnum útlendingana. „Sumir eru bara undrandi og hlæjandi allan tímann og ég hef alveg lent í því að fólk er hreinlega í geðshræringu yfir landslaginu hérna. Fólk hefur líka gaman af því hvað hestarnir eru vinalegir og smáir hérna.“ Túrarnir hjá Jóhönnu taka rúmlega klukkustund og segir hún það alveg vera nóg fyrir byrjendur, enda koma margir óvanir til hennar. Hún segir að ekki fari mikið fyrir Íslendingunum en þó slægist þar inn einn og einn. Aðallega eru erlendir ferðamenn að sækjast í þessar ferðir. Hvernig verður sumarið, er nóg að gera? „Ég vona það,“ segir Jóhanna og hlær. Hún segir ekki mikið um það

að fólk sé að panta ferðir langt fram í tímann og oft komi það fyrir að hringt sé í hana og hún farin af stað með hóp eftir klukkutíma. „Ég vil hafa þetta persónulegt og ég held að fólk upplifi þetta betur þannig, í stað þess að vera kannski með 20 öðrum að reyna að hlusta á leiðsögumanninn. Ég er líka mikið með börnin mín með mér og útlendingarnir hafa mjög gaman af því. Þeir hafa mjög gaman af því að sjá lítinn hvíthærðan fimm ára gutta á hestbaki.“ En hvað segir Jóhanna um byggingu nýrrar reiðhallar sem er að rísa í Grindavík um þessar mundir hjá hestamannafélaginu Brimfaxa. „Ég er alveg alsæl með það og á eflaust eftir að geta nýtt mér það hús mjög mikið. Það er lúmskt mikil gróska í hestamennskunni hér í Grindavík og margir sem hafa þetta að áhugamáli,“ sagði Jóhanna að lokum.


7

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012

markhonnun.is

Tilboðin gilda 31. MAÍ - 3. JÚNÍ

LambaLæri Frosið Kræsingar & kostakjör

1.198 áður 1.498 kr/kg

Sumarlegar Steikur nautakoteLettur

grísaLund

nautagriLLsteik

M/HVíTlAuk oG RóSApipAR

uSA

fERSk

30% a

fsláttur

áður 2.598 kr/kg

Croissant m/skinku og osti

NÝBAKAÐ TILBOÐ

BAkAÐ Á STAÐNuM

2.099

1.386 áður 1.898 kr/kg

áður 2.998 kr/kg

kjúkLingavængir

ananas

HVíTlAukS - GRill

fERSkuR

ttur

ttur 50% afsLá

40%

115

50% afsLá afslá

ttur

299

áður 229 kr/stk

149

áður 498 kr/kg

x-tra hvítLauksbrauð

x-tra rúLLuterta

x-tra kossar

1 STk 175 G

HiNdBERjA

BlANdAÐiR 200 G

áður 298 kr/kg

25% a

fsláttur

199

kr/pk

198 áður 239 kr/stk

89

áður 119 kr/stk

www.netto.is | Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana. | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

ávöxTur vIKuNNAr

1.949


8

FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

›› Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Grindavík, í viðtali við Víkurfréttir:

„Bláa lónið er heimsklassa ferðaþjónustufyrirtæki og það hefur smitað út frá sér inn í bæinn okkar. Ég er á því að ferðaþjónustan sé að verða okkar önnur stoð í atvinnulífinu í Grindavík. Þetta er orðinn alvöru heilsárs iðnaður og ég á von á því að þetta eigi eftir að aukast með tilkomu nýs hótels við Bláa lónið. Afþreying hérna á svæðinu á eftir að taka mikinn kipp þegar það hótel rís,“ segir bæjarstjórinn.

Verður alltaf sjávarútvegsbær R

óbert Ragnarsson hefur verið bæjarstjóri Grindavíkur frá því um sumarið 2010. Hann gegndi starfi bæjarstjóra í Vogum árið 2006 þar til hann tók við stjórnartaumum í Grindavík en Róbert er með meistarapróf í stjórnmálafræði og hefur einnig starfað sem verkefnisstjóri í Félagsmálaráðuneytinu þar sem hann meðal annars stýrði átaki til eflingar sveitarstjórnarstigsins. Jafnframt var hann um tíma stundakennari við stjórnmálafræðiskor Háskóla Íslands, þar sem hann kenndi stjórnun og starfsumhverfi sveitarfélaga. Róbert er kvæntur Valgerði Ágústsdóttur og eiga þau saman þrjá syni. Róbert var svo ferðamála- og markaðsfulltrúi Grindavíkurbæjar um aldamótin síðustu. Víkurfréttir kíktu í heimsókn til Róberts á skrifstofu hans í Grindavík og ýmis mál sem snerta sjávarútvegs- og ferðamannabæinn Grindavík voru þar rædd. Nýlega var gerð úttekt á skólamálunum í Grindavík og síðan þá hafa verið gerðar tvær umbótaráætlanir, annars vegar í sérkennslu og svo almennt, en hvernig komu skólamálin út í Grindavík? „Það var beggja blands. Það voru atriði sem komu mjög illa út, t.d. hvað varðar stjórnun og stefnumótun. Þar fengum við í raun staðfestingu á því sem við töldum okkur vita. Síðan Gunnlaugur Dan Ólafsson, sem hafði verið farsæll skólastjóri hér í yfir 20 ár fór, þá dettur rosalega mikið niður af því sem hann hafði verið að gera. Skólastjórinn sem fyllti í skarð hans var einfaldlega ekki að valda verkefninu enda var hann látinn fara í nóvember síðastliðnum,“ segir Róbert. „Við fáum hins vegar mjög góða umsögn um aðbúnað og menntun kennara, fjármagn til skólans er líka eins og best verður á kosið.“ Róbert segir Grindavíkurskóla hafa verið meðal bestu skóla Suðurnesja ásamt Heiðarskóla fyrir um 3-4 árum síðan en undanfarið hafi fatast flugið. „Stjórnun í skólanum var ekki nægilega markviss og í kjölfar af því hefur eðli málsins samkvæmt ekki gengið eins vel,“ en Róbert vonast til þess að leiðin liggi nú upp á við. „Hér var engin skólaskifstofa áður en sveitarfélögin tóku við skólunum og Grindvíkingar voru að kaupa ýmsa utanaðkomandi þjónustu. Undanfarin ár hefur þrýstingurinn á aukna þjónustu vaxið alveg stórkostlega, bæði hér og annars staðar og við erum því komin með okkar eigin skólaskrifstofu þar sem nálgast má alla þjónustu. Við erum því að veita alveg svakalega mikla þjónustu nú til dags.“ Að mati Róberts er rosaleg krafa um þjónustu og hann telur sveitarfélögin hafa sinnt þeirri þjónustu mjög vel eftir að ríkið sleppti hendinni af skólunum. „Skólarnir eru orðnir miklu betur búnir og flottari en áður. Nú eru líka menntaðir kennarar í öllum stöðum. Þetta kostar sitt og hjá Grindavíkurbæ eru fræðslumálin 67% af skatttekjum bæjarins og voru á tímabili yfir 70%. Árið 2009 voru svo íþrótta- og æskulýðsmál 25% á móti 70% í skólamálum. Þessir tveir málaflokkar tóku hreinlega allar skatttekjur til sín og aðrir málaflokkar voru fjármagnaðir með vaxtatekjum úr hitaveitusjóðnum. Nú erum við að reyna að vinda ofan af þessu og koma hlutunum í eðlilegra ástand,“ segir Róbert og tekur það fram að ef ekki náist betri árangur í samræmi við fjármagn sem er sett í skólana þá verði að endurskoða málin. Grindavík verður alltaf sjávarútvegspláss Fyrirhugaðar eru stækkanir og breytingar á íþróttamannvirkjum í bænum. Bæta á við rúmlega 400 fermetrum við íþróttahúsið og gera um leið nýja búningsklefa. Einnig er á teikniborðinu viðbygging við grunnskólann þar sem hýsa á bókasafn og tónlistarskóla. Þá stendur til að gera nýjan sal við íþróttahúsið sem rúmar um 200 manns en sá salur myndi vera samkomusalur bæjarins og íþróttafélaganna. „Sá salur ætti að leysa að mestu það hlutverk sem Festi hafði áður og

ráðgert er að útbúa íþróttasalinn þannig að hann geti hýst stóra viðburði.“ Róbert segir ekki vera neinn ágreining um hvort ráðast eigi í þessar framkvæmdir heldur einungis um hvernig útfæra eigi hlutina. Markmið bæjarins sé að hafa allar íþróttadeildir á sama stað og skapa þannig meiri stemningu, en fótboltinn vilji frekar hafa sína aðstöðu þar sem áhorfendastúkan stendur. Einhverjir aðilar eru á því að ekki eigi að ráðast í slíkar framkvæmdir á meðan ekki liggur ljóst fyrir hvernig nýtt kvótafrumvarp sem liggur fyrir á Alþingi hafi áhrif á Grindavík. „Það er áhætta í öllu og við vitum ekki hvað gerist varðandi þessi frumvörp. Það er líka áhætta fólgin í því ef að eitthvert sjávarútvegsfyrirtækjanna ákveður að selja kvótann úr bænum. Ef við ætlum alltaf að bíða vegna einhverrar óvissu þá verður okkur ekkert úr verki. Ég held að Grindavík verði alltaf sjávarútvegspláss,“ segir Róbert. Hann telur ekkert benda til þess að sjávarútvegsfyrirtæki færi sig um set og hann segir þau vera ákaflega heimakær og styðji vel við samfélagið. „Skerðingar eins og boðaðar eru í frumvarpinu verða þess valdandi að leigja þarf kvótann til baka til að halda sömu stöðu. Sá kostnaður, ásamt veiðigjöldum mun örugglega hafa áhrif á rekstur þessara fyrirtækja, þau þyrftu jafnvel að fækka starfsmönnum sem myndi hafa áhrif á okkar útsvarsstofn. Það er vissulega áhætta en við munum þurfa þessi mannvirki hvernig sem fer.“ Fjögur ár eru liðin síðan samkomuhús Grindvíkinga, Festi, var síðast notað og segir Róbert vissulega vera mikinn söknuð af húsinu. „Mannlífið hefur blómstrað þrátt fyrir það og þetta hefur alveg gengið upp. Aðrir salir hér í bænum og við Bláa lónið hafa reynst okkur vel og það hefur sem betur fer ekki verið nein krísa.“ Hann segist vonast til þess að einhver kaupi Festi og geri þar verslunar- og þjónusturými. „Við höfum verið í viðræðum við aðila sem vilja breyta húsinu í gistiheimili og verslunarrými og vonandi gengur það eftir.“ Ferðaiðnaðurinn önnur stoð Grindvíkinga Róbert var kennari í Grindavík á árunum 1996-7 og kom síðan aftur til starfa sem ferðamálafulltrúi árið 1999 þá aðeins 23 að aldri. Þá var Bláa lónið að flytja sig í nýtt húsnæði sem var upphafið að þeim mikla vexti og árangri sem þar hefur

náðst að sögn Róberts. „Ferðaþjónustuaðilar í Grindavík eru þá að átta sig á því að þetta sé alvöru markaður og byrja að skipuleggja sig sem atvinnumenn frekar en áhugamenn. Ég kem svo aftur til Grindavíkur 12 árum síðar og þá eru öll viðmið orðin mikið hærri og menn eru búnir að læra betur á þjónustuna og markaðinn. Hér koma fyrirtæki eins og Salthúsið sem er virkilega gott þegar kemur að sjávarréttum og kaffhús eins og Bryggjan sem hefur ákveðna sérstöðu sem íslenskt sjóarakaffihús.“ Róbert segir fyrirtæki eins og Fjórhjólaferðir einnig vera til fyrirmyndar enda séu þar starfandi björgunarsveitarstrákar sem hafi öll öryggisatriði á hreinu og ekkert sé þar í ólagi. Fagmennska í ferðaþjónustu sé mikil í dag. „Bláa lónið er heimsklassa ferðaþjónustufyrirtæki og það hefur smitað út frá sér inn í bæinn okkar. Ég er á því að ferðaþjónustan sé að verða okkar önnur stoð í atvinnulífinu í Grindavík. Þetta er orðinn alvöru heilsárs iðnaður og ég á von á því að þetta eigi eftir að aukast með tilkomu nýs hótels við Bláa lónið. Afþreying hérna á svæðinu á eftir að taka mikinn kipp þegar það hótel rís,“ segir bæjarstjórinn. Það koma rúmlega 500 þúsund gestir á ári í Bláa lónið og þaðan eru aðeins fjórir kílómetrar inn í Grindavík. Til stendur að leggja göngu- og hjólastíga og merkingar fyrir um 70 milljónir króna frá Lóninu til Grindavíkur og um hafnarsvæðið. Róbert segir að hér sé erlent ferðafólk allan ársins hring, ferðamannatíminn svokallaði sé allt árið um kring en ekki bundinn við ákveðin tímabil. Segir hann einnig umferð hafa aukist með opnun Suðurstrandarvegar. „Við höfum svo sem engar handbærar mælingar enda hafa engar talningar verið gerðar á veginum. Þjónustuaðilar í Grindavík segjast þó taka eftir því að fleira fólk frá Suðurlandi leggi leið sína hingað, sem er afar jákvætt.“ Skemmtilegur bæjarbragur vegna Sjóarans síkáta ,,Sjómannadagurinn hefur lengi verið í hávegum hafður í Grindavík og í tengslum við það hefur bæjarhátíðin okkar vaxið og yfirleitt farið vel fram. Við höfum stílað inn á fjölskyldufólk og þetta hefur gengið mjög vel.“ Róbert segir hátíðina skipta miklu máli fyrir bæjarbraginn þar sem keppni milli hverfa sé mjög skemmtileg. „Það er ekki bara þannig að við séum að fá hingað fjölda gesta heldur er þetta hátíð heimamanna og fólk er að koma til Grindavíkur til þess að taka þátt í hátíðinni með okkur, við erum ekki bara að skemmta gestum.“ Róbert telur að Grindavík geti vel vaxið og dafnað sem bær í komandi framtíð en aðalskipulag gerir ráð fyrir 6.000 íbúum árið 2030 en í dag eru íbúar um 2800. Róbert segir þó ekki hollt að vaxa of hratt og telur hann 3% aukningu íbúa á ári vera yfirdrifið nóg. Róbert er fæddur og uppalinn í Keflavík en hann hefur þrisvar verið búsettur í Grindavík. „Mér finnst ekkert skrítið að vera Keflvíkingur hérna í Grindavík. Fólk er svona stundum að skjóta á mig að ég sé úr Keflavík en þessu gamli rígur er ekki til lengur, þetta er bara á skemmtilegu nótunum.“ Róbert segir það aðallega vera skrítið þegar að Grindvíkingar og Keflvíkingar mætast á fótboltavellinum, þá á hann stundum erfitt með sig. „Það hjálpar að ég spilaði fótbolta með Keflavík þegar búningarnir voru gulir og bláir, þannig að ég er ekki óvanur að styðja þá liti,“ segir Róbert léttur í bragði en synir hans spila að sjálfsögðu með Grindavík. „Ég held að það sé ekkert öðruvísi fyrir íbúa hér að fá Keflvíkinging sem bæjarstjóra frekar en Akureyring eða Vestfirðing. Ég held að fólk hafi bara gaman af því að geta strítt Keflvíkingnum, sérstaklega í vetur þegar Grindvíkingum gekk betur í körfuboltanum, þá fékk maður alveg að heyra það,“ segir bæjarstjórinn að lokum.


9

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012

GLÆSILEG BARNADAGSKRÁ Á SJÓARANUM SÍKÁTA Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á barnadagskrá á sjómanna- og �ölskylduhátíðinni Sjóaranum síkáta í Grindavík, laugardaginn 2. júní og sunnudaginn 3. júní. Barnadagskráin er í boði Landsbankans.

Dagskrá � Sproti

� Krakkakeyrsla

� Skoppa og Skrítla

� Sjópulsan í höfninni

� Töframaðurinn Einar Mikael

� Hoppukastali

� Brúðubíllinn

� Dorgveiðikeppni

� Danshópurinn Dance Queens

... og margt fleira

� Danssmiðjan í Reykjanesbæ

ðnum.

Skoppa og Skrítla verða á sta

Sproti mætir hr

ess að vanda.

Dagskrá Sjóarans síkáta og allar nánari upplýsingar eru á www.sjoarinnsikati.is


10

FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Vilja aukið framlag vegna fjarnáms á Suðurnesjum

Flóamarkaður Föstudaginn 1. júní nk., verður haldinn flóamarkaður að Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ, frá kl. 13:00 - 16:30.

F

Rauði kross Íslands Suðurnesjadeild

Steypugljái á stéttina í sumar Finndu fola sem fullkomnar þig!

SUPERSEAL TOP COAT Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum

– Afslátt eða gott verð? Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

BIFVÉLAVIRKI

ÓSKAST Laghentir, bílaþjónusta, leitar að bifvélavirkja til starfa í Reykjanesbæ. Um er að ræða langtímastarf. Upplýsingar veitir Guðmundur í síma 861 7600 eða á staðnum, Iðjustíg 1 C

ATVINNA Óskum eftir að ráða blikksmið eða málmiðnaðarmann sem fyrst.

Blikksmiðja Ágústar Guðjónssonar Vesturbraut 14 Reykjanesbæ. Umsóknir sendist á agblikk@simnet.is

Fá umfjöllunarefni eru eins vinsæl í bíómyndum, bókmenntum, ljóðum, lögum og listum eins og ástin. Þar koma fram mis gáfuleg skilaboð þar sem við erum hvött til að sleppa öllu og gera nánast hvað sem er fyrir ástina. Im gonna die for you, cry for you, spy for you........... Við sem erum einhleyp erum minnt á það að við séum ekki alveg „normal“ og fyrirsagnir eins og „Hvernig finnur þú drauma makann“ eða „Er sálufélagi þinn hinum megin við hornið“ eru dæmigerðar ábendingar um að það sem við eigum öll að stefna að – finna þann sem fullkomnar okkur. Viðurkenni það vel að ég hef sveiflast í þessu sem og öðru í lífinu og á tímum verið ofurseld þeirri hugmynd að ég væri bara hálf manneskja að vera ein, á meðan ég er sátt og sæl þess á milli. En skilaboðin eru þarna, sama hvað hver segir og hér hef ég tekið saman ábendingar frá vinum mínum ráðgjafanum, sjálfshjálparbókafíklinum og bíómyndasjúklingnum: Ráðgjafinn: ertu alltaf ein, bíddu hvað er málið, þú gerir allt of miklar kröfur, þú verður að vera opnari, þú verður að fara meira út, þú ert of lokuð, þú ert allt of opin, þú sendir út kolröng skilaboð, þú klæðir þig eins og nunna, þú klæðir þig eins og gleðikona, þú ert allt of stíf, þú ert allt of hress, þú talar allt of mikið um þig, þú gerir allt of miklar kröfur, þú gerir óraunhæfar kröfur, þú gerir engar kröfur. Hvaða staði ertu að sækja? Þú ÁTT að fara á 101 eða barinn á Nordica, happy hour, Súfistann, Kaffi París, meira í sund, labba á fjöll, hlaupa í hóp, ganga í björgunarsveit, taka þátt í pólitík og vera meira áberandi, samt ekki of því það fílar það enginn. Ef þú skyldir nú komast á stefnumót þá máttu alls ekki tala um fyrrverandi, vinnuna, börnin, forsetaframboðið, náttúruvernd, kreppuna, PIP púða eða pólitík...... Þú mátt alls ekki drekka of mikið, en heldur ekki of lítið, vera of mikið máluð eða hlæja of hátt. Ekki svara við fyrstu hringingu, senda of mörg sms eða taka frumkvæðið að hitting og fyrir alla muni þá verður þú að muna að hann er veiðimaðurinn og þú ert gyðjan!! Sjálfshjálparbókarfíkillinn: þetta er alls ekki svona flókið, farðu eftir þessu þá getur það ekki klikkað. Byrjaðu á að lesa „Klúðraðu ekki lífi þínu kona“ og stúderaðu bókina „Súperflört“ afturábak og áfram, pantaðu svo á amazon.com „Why am I still single“ og „How to meet your match“ ásamt „How to make a man fall in love with you“ eða „Make every man want you“!! Nú ef þú kemst á stefnumót eru bækur eins og „Why do men love bitches“, „Rules of the game“ og „The pick up artist“ ómissandi og svo gæti verið gott að lesa „Hes just not that into you“ eða „You lost him at hello“ og „Affairs of the net“. Um leið og þú ferð í gegnum bækurnar „Is your man cheating on You“ og „The Tiger Wood Syndrome“ mundi ég stinga í jakkavasann hans „How to treat a woman“ og „A new ladies man“. Nú ef sambandið virðist eiga möguleika þá mundi ég ekki fyrir nokkra muni sleppa bókinni „The secret lives of men“ „Before its to late“ og „Finding the hero in your husband“. Svo máttu ekki gleyma sjálfri þér í öllu þessu og þá koma YOU bækurnar að góðum notum: YOU on a diet, YOU being beautiful, YOU stressless, YOU staying young, YOU staying sexy and in shape all the time. Bíómyndanördin: ertu örugglega búin að stúdera „Pretty woman“, hallóóóó, við erum að tala um gleðikonu sem fann draumamanninn, ríkan, myndarlegan og með mikla tilfinningagreind. Eða „An officer and a gentleman“, verksmiðjustúlkan sem fékk herforingjann sinn að lokum! Og af því að þú ert kennari þá er myndin „The mirror has two faces“ kannski málið. Kennarinn þurfti BARA að breyta útlitinu til að maðurinn sem hún elskaði fattaði hvað hún væri gordjöss í raun og veru en líka með heila. En ekki vera með of mikinn heila! Mundu að í „The way we were“ þá þvældust metnaðurinn og hugsjónirnar bara fyrir Catie, ekki viltu það, HA! Hún missti manninn út af því. Taktu svo „Titanic“ kvöld öðru hvoru. Hverju fórnar maður ekki fyrir ástina þrátt fyrir að hafa aðeins þekkst í nokkra daga. Við erum að tala um að maðurinn fraus fyrir HANA! Held þú þurfir aðeins að skoða forgangsröðunina í lífi þínu! Anna Lóa í vörn: Já en mikilvægasta sambandið í lífinu hlýtur alltaf að vera við sjálfan þig (skrifaði meira að segja heilan pistil um það) – og ef ég er sátt og sæl þá hlýtur hitt að koma ef það á að koma. Það er ekki eins og þetta sé það sem skipti öllu máli. Það eru kostir og gallar við að vera einn og mér finnst þið sem eruð í sambandi nú alveg vera gangandi sönnun þess. Það er alveg sama hvaða aðstæður það eru sem við erum í, það er aldrei ein allsherjar sæla! Þannig er bara lífið ekki, sama hvað hver segir (sniff). Ráðgjafi, sjálfshjálparbókafíkill og bíómyndasjúklingur svara nánast samhljóma: Mímímímí, blablabla – það VILL enginn vera einn, sættu þig við það og hættu þessu rausi og „ég þarf að elska sjálfa mig og virða“ kjaftæði! Málið er einfalt: finndu einhvern fola sem fullkomnar þig!! Þangað til næst – gangi þér vel. Anna Lóa

ulltrúar Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum áttu fund með stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum á dögunum til að að ræða þá stöðu sem upp er komin með fjarnám á Suðurnesjum. Aðstaða er fyrir fjarnema á tveim stöðum á Suðurnesjum, þ.e. í Reykjanesbæ og Grindavík. Fjöldi nemenda á hverri önn er 80-100 manns. Meðalaldur nemenda er 36 ár og stundar stór hluti nemenda vinnu með námi. Búseta fjarnema hefur verið greind og var niðurstaðan sú að 87% útskrifaðra nemenda búa á Suðurnesjum. Frá árinu 2004 hafa 107 nemendur útskrifast frá Háskólanum á Akureyri. Eins og staðan er núna þá vantar fjármuni til að standa undir rekstri fjarnáms á Suðurnesjum á næstu árum. Stjórn S.S.S. samþykkir að fela formanni og framkvæmdastjóra að fara í viðræður við Mennta- og menningarmálaráðuneytið um aukið framlag til svæðisins vegna fjarnámsins í samráði við forsvarsmenn MSS. Í framhaldi af þessum fundi bókaði bæjarráð Sveitarfélagsins Voga eftirfarandi: „Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga styður að á næstu fjárhagsáætlun Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum verði því fé sem veitt er í sérstök verkefni sveitarfélaganna forgangsraðað þannig að Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum geti boðið upp á fjarnám í hjúkrunarfræði næsta haust. Ef fundur S.S.S. og M.S.S. með ríkinu bera árangur og frekari framlög fáist í fjarnám á Suðurnesjum á því tímabili sem hjúkrunarfræðinámið stendur yfir mun framlag sveitarfélaganna lækka sem því nemur. Svæðið þarf mjög á hjúkrunarfræðimenntuðu fólki að halda ekki síst í öldrunarþjónustu og er fjarnám í hjúkrunarfræði mikilvægt fyrir þá uppbyggingu í hjúkrunarmálum aldraðra sem nú er að fara af stað“. Stjórn S.S.S. tekur á síðasta fundi sínum undir með Sveitarfélaginu Vogum að brýnt sér að bjóða upp á aðstöðu til fjarnáms á Suðurnesjum. Stjórnin mun aðstoða M.S.S. til að leita leiða við að finna fjármagn svo hægt sé að halda uppi þjónustu við fjarnema á Suðurnesjum. Nauðsynlegt er að ríkið komi til móts við M.S.S. og sveitarfélögin á Suðurnesjum með því að styrkja fjarnám á svæðinu til jafns við aðra landshluta. Þannig væri hægt að tryggja áframhaldandi fjarnám hjá M.S.S.

Átján ára á 156 kílómetra hraða

S

autján ökumenn reyndust aka yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum nú um helgina. Ellefu ökumenn gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum. Ökumennirnir sautján mældust allir á of miklum hraða á Reykjanesbraut. Einn þeirra var 18 ára piltur, sem mældist á 156 kílómetra hraða. Hann þarf að greiða 140 þúsund krónur í sekt og fær þrjá punkta í ökuferilsskrá.


11

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012

Ráðinn verkefnastjóri Reykjanes Geopark H

eklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja hefur ráðið Eggert Sólberg Jónsson sem verkefnastóra Reykjanes GeoPark en alls bárust 32 umsóknir um stöðuna. Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa skrifað undir samkomulag um stofnun jarðvangs á Reykjanesi sem hefja mun umsóknarferli til European Geoparks Networks en bundnar eru vonir við að árangur verkefnisins skili sér í aukningu

ferðafólks á svæðinu, eflingu vísindarannsókna, aukna samvinnu og uppbyggingu í ferðaþjónustu og dýpri og aukinni þekkingu á viðfangsefninu jarðvangur. Eggert er með meistarapróf í þjóðfræði og hefur góða reynslu af undirbúningi jarðvangs en hann sat m.a. í undirbúnings- og verkefnahópi um Kötlu jarðvang auk þess sem hann hefur starfað sem forstöðumaður Kötluseturs. Eggert

býr í Grindavík ásamt fjölskyldu sinni. Vegna legu sinnar og áhugaverðra jarðsögu- og menningarminja er Reykjanes tilvalið svæði fyrir jarðvang en áhersla verður lögð á að nýta þá sérstöðu til áframhaldandi þróunar og uppbyggingar á Suðurnesjum. Eggert verður með aðsetur hjá Heklunni í Eldey þróunarsetri á Ásbrú.

›› Magnús Már nýr formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur:

Felldi 83 ára formann eftir 28 ára formannssetu

M

agnús Már Jakobsson var í síðustu viku kjörinn nýr formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur. Hann bauð sig fram gegn sitjandi formanni, Benóný Benediktssyni sem hafði stýrt félaginu í 28 ár, og hafði betur með 40 atkvæðum gegn 7. „Ég bauð mig fram vegna þess að verkalýðsmál eru mér hugleikin og ég hef mikinn áhuga að vinna að málefnum verkafólks, mér finnst við vera að gleymast svolítið í umræðunni. Ég fékk margar áskoranir úr ýmsum áttum að bjóða mig fram. Ég vonast til þess að geta fetað í fótspor Benónýs sem hefur unnið frábært starf sem formaður félagsins í rúma þrjá áratugi,“ sagði Magnús við heimasíðu Grindavíkurbæjar, aðspurður hvers vegna hann hefði ákveðið að bjóða sig fram gegn sitjandi formanni. Eftir að Magnús var kjörinn formaður á aðalfundinum ákváðu Kristólína Þorláksdóttir, Ása Lóa Einars-

dóttir og Steinunn Gestsdóttir að stíga til hliðar úr stjórninni. Í þeirra stað voru kosin þau Piotr Slawomir Latkowski, Gylfi Ísleifsson og Gunnlaugur Hreinsson. Áfram halda í stjórn þau Geirlaug Geirdal, Hólmfríður Georgsdóttir og Gunnar Vilbergsson sem í fyrra var kjörinn varaformaður til tveggja ára. Eins og áður hefur komið fram var Benóný formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur í 28 ár en hann er orðinn 83 ára gamall. Á 75 ára afmælishófi félagsins í febrúar sl. var hann gerður að fyrsta heiðursfélaga verkalýðsfélagsins. Benóný hafði verið varamaður verkalýðsfélagsins í sex ár áður en hann tók við formennskunni. Kristólína hætti einnig í stjórninni eftir 28 ára setu en hún og Benóný hafa byggt upp öflugt félag síðustu þrjá áratugi. Fjárhagur Verkalýðsfélags Grindavíkur er afar traustur. Magnús Már hefur starfað sem öryggis- og gæðafulltrúi í Bláa lóninu undanfarin ár. Hann er 43 ára, kvæntur Salbjörgu Júlíu Þorsteinsdóttur og eiga þau eina dóttur.

n Auglýsingadeild í síma 421 0001 n Fréttadeild í síma 421 0002 n Afgreiðsla í síma 421 0000

Fréttavakt allan sólarhringinn í síma 898 2222 HJÚKRUNARHEIMILI Á NESVÖLLUM

ÚTBOÐ II SÖKKLAR, KJALLARI OG GÓLFPLATA 1. HÆÐAR

Verkfræðistofa Suðurnesja ehf, fyrir hönd Reykjanesbæjar, óskar eftir tilboðum í verkið: „Hjúkrunarheimili Nesvöllum Útboð II - Sökklar, kjallari og gólfplata 1. hæðar“. Verkið felst í uppsteypu á sökklum, kjallara og gólfplötu 1. hæðar ásamt grunnlögnum og tilheyrandi jarðvinnu. Búið verður að grafa grunn og fylla undir sökkla þegar verktaki þessa verks kemur að verkinu. Helstu magntölur: Steypa 580 m³ Mót 750 m² Járn 60.000 kg Fylling 2.000 m³ Þessu verki skal að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2012. Útboðsgögn (geisladiskur eingöngu) verða seld á skrifstofu Verkfræðistofu Suðurnesja ehf, Víkurbraut 13, 230 Reykjanesbæ, á kr. 10.000,- frá og með þriðjudeginum 5. júní 2012. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Nesvalla, Njarðarvöllum 4, 230 Reykjanesbæ, mánudaginn 14. júní 2012, kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Víkurfréttir flytja í Krossmóa 4

- og opna eftir helgina!

Víkurfréttir flytja höfuðstöðvar sínar í nýtt húsnæði sem er sérsniðið að starfsemi blaðsins. Opnum nk. mánudag á 4. hæð Krossmóa 4, í nýjum miðbæ Reykjanesbæjar. Vonumst til að ekki verði mikil röskun á síma- og póstsambandi á meðan flutningum stendur.

Víkurfréttir ehf. Krossmóa 4, 4. hæð 260 Reykjanesbæ Sími 421 0000


12

FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Þ

au Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona og Brynjar Leifsson gítarleikari hljómsveitarinnar Of Monsters And Men eru orðin þrælvön viðtölum og kipptu sér lítið upp við það þó útsendari Víkurfrétta hafi klófest þau í Flugstöð Leifs Eiríkssonar áður en þau héldu af stað vestur um haf í síðustu viku. Hljómsveitin hefur verið mikið á ferðinni að undanförnu en þau voru að ljúka kærkomnu fríi hér heima á Íslandi og á leið í aðra tónleikaferð. Vinsældir sveitarinnar eru sífellt að aukast og er sveitin oft talin á barmi hinnar margrómuðu heimsfrægðar.

Frægðarskrímslið handan við hornið - hjá Of Monsters And Men

„Það komu stundum heilu dagarnir sem fóru bara í að kynna sveitina og þá voru kannski tíu viðtöl yfir daginn,“ segir Brynjar. Nanna tekur undir það og segir að þegar um sjónvarpsviðtöl hafi verið að ræða þá hafi ræs verið klukkan fimm á morgnana. „Við lentum alveg í því þegar við vorum í New York að við komum af tónleikastað klukkan tvö um nótt og þurftum að vakna eftir þrjá tíma til þess að gera okkur klár fyrir sjónvarpið.“ Sveitin kom nýverið fram í spjallþætti grínistans Jimmy Fallon sem gerði garðinn frægan í Saturday Night Live þáttunum vinsælu. Eru sem sagt engir frídagar til þess að skoða þessa staði sem þið eruð að heimsækja? Brynjar: „Það kemur alveg einn og einn dagur en það er ekkert allt of mikið af frídögum.“ Nanna: „Við erum svo yfirleitt sofandi þegar við keyrum á milli borga þannig að við vöknum á einhverjum nýjum stað og förum beint á hótel og svo tónleikastaðinn.“ Eru þið eitthvað búin að átta ykkur á því hvað þið eruð í raun orðin vinsæl? Brynjar: „Ég veit það hreinlega ekki. Þegar maður er úti þá er maður bara í rútunni og að spila á tónleikum og er einhvern veginn bara í þeim heimi.“ Nanna: „Það er oft soldið klikkað og brjálað að gera. Stundum er það frekar yfirþyrmandi. Svo kemur maður heim og þá finnst mér eins og maður núllstilli sig, nái alveg áttum aftur.“ Hvað gerðuð þið í fríinu hér heima? Brynjar: „Ég fór upp í sumarbústað. Ég fór líka í ræktina til að ná af mér allri pítsunni. Nanna: „Ég bara borðaði geðveikt mikið. Ég ætlaði alltaf í ræktina en svo fannst mér bara miklu betra að borða og horfa á sjónvarpið (hlær). Er fólk að veita ykkur einhverja athygli úti á götu? Nanna: Nei ekki get ég sagt það. Kannski bara þegar fólk er að drekka, þá fer fólk að koma til manns og tjá sig. Brynjar: „Í Keflavík kemur fólk til manns sem þekkir kannski foreldra manns og óskar manni til hamningju með árangurinn, eitthvað í þá áttina.“ Nanna: „Það er oft þannig, fólk vill manni voðalega vel og óskar okkur góðs gengis.

Eru þið ekki að upplifa drauminn að mörgu leyti? Nanna: „Jú. Ég held að við séum í mjög skemmtilegri aðstöðu og erum að gera það sem við viljum vera að gera. Þetta er sjálfsagt erfitt í einhvern tíma og maður þarf að hafa fyrir þessu.“ Brynjar: „Þetta verður kannski auðveldara síðar og öll þessi vinna skilar sér vonandi. Nanna: „Maður lærir bara á þetta en við vitum auðvitað ekkert hvað við erum að gera núna. Við rennum frekar blint í sjóinn með þetta allt saman.“ Brynjar: „Þetta er oft svo mikið planað fyrir okkur, við mætum bara upp í flustöð. Það er vel séð um okkur.“ Hvernig eru þessir tónleikastaðir sem þið hafið verið að leika á? Brynjar: „Þeir eru mjög misjafnir.“ Nanna: „Já. Þegar við vorum t.d. að spila í House of blues í Boston þá voru 2500 manns í húsinu. Það var alveg svakalegt og maður fékk alveg fiðring í magann. Nokkrum dögum síðar vorum við að spila fyrir 200 manns. Bara svipað og að spila á Paddy´s.“ Brynjar: „Árni í hljómsveitinni orðaði þetta skemmtilega þegar

hann sagði eftir fyrstu tónleikana að þetta hefði verið þannig tilfinning að við værum orðin fræg í Boston, svo kom það í ljós á næstu tónleikum að við vorum bara ekkert fræg í Boston (hlæja bæði). Framundan er mikið af tónleikahátíðum hjá sveitinni og mikil ferðalög. Þau koma aftur heim núna þann 5. júní í frí en svo verða þau meira og minna að spila í júlí, ágúst og september. Nanna: „Við spilum á Reading og erum núna á leið á Sasquatch og Lollapalooza. Svo munum við spila á Newport Folk Festival og Osheaga í Montreal, Lowlands Festival, Pukkelpop. Ég hef bara faið á Hróarskeldu og það var æðislega gaman. Við erum alltaf að spyrja umboðsmanninn okkar hvort við getum ekki spilað þar.“ Hvernig líst ykkur á Keflavík Music Festival sem er að hefjast í Reykjanesbæ? Nanna: Það hljómar rosalega vel. Mér finnst alltaf gaman þegar það er svona gróska í gangi. Þegar svona litlar hugmyndir verða að einhverju svona dæmi. Það þarf oft bara hugmynd og svo að kýla á það.“ Brynjar: „Það hljómar bara virkilega vel.“ Hvernig var svo að vera í þætti Jimmy Fallon, væntanlega öðruvísi en að vera á tónleikum? Brynjar: „Já, það var rosalega spes. Þetta gerðist svo hratt. Við vorum búin að æfa í settinu hjá þeim en við komum þarna snemma um morguninn. Svo fengum við tveggja tíma pásu og komum seinnipartinn í förðun og lokaundirbúning. Svo þegar þetta er að gerast þá er stressið mikið, meira en á venjulegum tónleikum. Nanna: „Þetta var tekið upp og svo spilað um kvöldið. Ég stillti verkjaraklukkuna og sá okkur spila í þættinum. Það var pínu skrítið að vera í Bandaríkjunum að horfa á okkur spila hjá Jimmy Fallon.“ Í lok júní kemur hljómsveitin fram í sjónvarpsþætti Jay Leno en hann hafa þau horft á síðan þau voru krakkar. Þau hlakka mikið til þess. „Þá kemur í ljós hvort hann sé til í alvörunni,“ segir Nanna og hlær. Þegar þau komu fram í sjónvarpsþætti Fallon var leikkonan Cameron Diaz einn gestanna og langaði strákana í hljómsveitinni að hitta skvísuna. Brynjar: Ég, Ragnar og Arnar ætluðum að fá mynd af okkur með Cameron Diaz og fórum fyrir utan búningsherbergi hennar.

Hún kom svo út og heilsaði okkur en það eina sem kom upp úr okkur var stuna úr Arnari. Þetta var ógeðslega vandræðalegt. Það var mjög fyndið að sjá einhvern sem maður hefur séð í ótal bíómyndum labba bara framhjá manni og heilsa.“ Nanna: Við hittum líka Mark Hoppus bassaleikara úr Blink 182. Ég var svakalegur aðdáandi þegar ég var yngri og fékk alveg stjörnur í augun. Strákarnir voru svo alltaf að segja við hann að ég elskaði hann, ég neitaði því nú þrátt fyrir að það sé að einhverju leyti satt,“ segir Nanna og hlær. Hvert er framhaldið hjá ykkur? Nanna: „Við verðum út árið og örugglega eitthvað fram á næsta ár að spila þetta efni. Við erum öll í sitthvoru horninu að semja eitthvað efni. Við förum sennilega ekki að æfa og taka upp efni fyrr en einhvern tíma eftir áramót. Kannski er það bara ágætt og við höfum úr fullt af hugmyndum að velja þegar við setjumst niður.“ Brynjar: „Plata númer tvö er alltaf mesta vesenið, er það ekki?“ Hvernig er það, eruð þið ekkert þreytt á lögunum ykkar, t.d. Little talks sem þið hafið væntanlega spilað gríðarlega oft? Brynjar: „Það er auðvitað alger klisja en maður finnur alltaf mismunandi strauma frá áhorfendum hverju sinni.“ Nanna: „Þegar við spilum það lag þá missir fólk alveg vitið og þá verður þvílíkt stuð og allir syngja með. Það er því alltaf frekar gaman að spila það lag.“ Þið náið alveg að halda ykkur á jörðinni? Brynjar: Já ég held það sko (hlær). Við höfum lent nokkrum sinnum í því að fólk vilji fá mynd af sér með okkur utan tónleika. Það er óneitanlega skrýtið að einhver þekki mann í útlöndum.“ Nanna: „Við erum ekkert að lenda í því að fólk sé að elta okkur á götum úti.“ Hvað finnst ykkum um alla þessa umfjöllun um hljómsveitina hér heima? Nanna: „Þetta er stundum fyndið hvað allir eru spenntir og hvað öllum finnst þetta gaman.“ Er einhver pressa á ykkur? Nanna: „Já alveg pínu sko. Á síðustu tónleikaferð þegar platan okkar fór í 6. sæti Billboard listans þá var ég að tala við vini mína heima sem sögðu mér að við hefðum verið í fréttunum daglega í tvær vikur, það var soldið fyndið.“ Krakkarnir drifu sig svo til hinna í hljómsveitinni sem væntanlega voru komin í Fríhöfnina eða á barinn. Viðtal og myndir: Eyþór Ssæmundsson


VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012

13

Nanna Bryndís er fædd og uppalin í Garðinum og Brynjar er Keflvíkingur í húð og hár


14

FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

HEYRNARÞJÓNUSTA Kæru Suðurnesjamenn Verðum á Nesvöllum í Reykjanesbæ fimmtudaginn 7. júní Verið velkomin

Ellisif Katrín Björnsdóttir Heyrnarfræðingur veitir faglega ráðgjöf

Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu Heyrn, Hlíðasmára 11, Kópavogur, heyrn@heyrn.is

Tímapantanir - 534 9600

Nánari upplýsingar www.heyrn.is

Fréttavakt allan sólarhringinn í síma 898 2222

Sleppti Kanarí og keypti lyftara S

onja Kristensen og fjölskylda færðu í síðustu viku hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði að gjöf lyftara og tilheyrandi segl til minningar um Jón Marinó Kristinsson. Jón Marinó var heimilismaður á Garðvangi um tíma og naut þar góðrar umönnunar sem fjölskyldan vildi þakka fyrir með þessum hætti. Sonja sagði við afhendingu gjafarinnar að hún hafi kostað sem

nemur mánaðarferð fyrir hana til Kanaríeyja og því hafi hún sleppt því þetta árið að skella sér til Kanarí og látið starfsfólk og heimilisfólk á Garðvangi njóta frekar gjafarinnar en lyftarinn sem gefinn var til Garðvangs mun auðvelda mjög alla vinnu, t.a.m. þegar heimilismenn falla í gólfið og hjálpa þarf þeim á fætur á ný. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson

Laus störf í leikskólum hjá Skólum ehf. Allir leikskólar Skóla ehf. starfa eftir Heilsustefnunni og leggja ríka áherslu á heilsueflingu, jákvæðan skólabrag og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Því leitum við að samstarfsfólki sem: • Er tilbúið til að tileinka sér starfsaðferðir leikskólans • Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum • Er tilbúið til að taka þátt í öflugri starfsþróun • Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig fram um að velja sér jákvæð viðhorf í dagsins önn.

Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um!

Heilsuleikskólinn Háaleiti, Ásbrú í Reykjanesbæ Auglýsir eftir: • Deildarstjóra í 100% stöðu • Leikskólakennara og/eða uppeldismenntuðum starfsmanni í 100% stöðu.

Milljón krónur til kaupa á hjúkrunarvörum

B

örn Guðrúnar K. J. Ólafsdóttur og Ásgeirs H. Einarssonar gáfu á dögunum eina milljón króna til hjúkrunarheimilisins Hlévangs í Keflavík. Upphæðina gáfu þau til minningar um foreldra sína en gjöfin er ætluð til kaupa á hjúkrunarvörum fyrir Hlévang. Meðfylgjandi mynd var tekin við afhendingu gjafarinnar. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson

Heilsuleikskólinn Háaleiti er 3 deilda leikskóli með um 54 börn.

AÐALFUNDUR

ÞROSKAHJÁLPAR Á SUÐURNESJUM verður haldinn fimmtudaginn 7. júní 2012 kl. 20:00 að Suðurvöllum 9. Dagskrá fundar:

Nánari upplýsingar veitir: Þóra Sigrún Hjaltadóttir leikskólastjóri, sími 426-5276 Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á http://www.skolar.is/Starf/

Venjuleg aðalfundarstörf

Stjórn Þroskahjálpar á Suðurnesjum

Heilsuleikskólar Skóla eru: Hamravellir í Hafnarfirði, Háaleiti á Ásbrú í Reykjanesbæ, Kór í Kópavogi, Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík.

r tt e frí em s um d nd lan Se t á er

hv

H e l l u h r a u n i 1 2 • H a f n a r fj ö r ð u r • 5 4 4 5 1 0 0 • w w w . g r a n i t h u s i d . i s Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is


15

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012

›› Samfélag í nýjan búning:

Landsbankinn greiðir áheit til góðra málefna M

argir hafa tekið eftir því að merki tveggja góðra málefna hafa prýtt búninga hjá körfuknattleiksliðum Keflavíkur og Njarðvíkur í vetur – Krabbameinsfélag Suðurnesja og verkefnið Stöðvum einelti. Landsbankinn er bakhjarl beggja liða og bæði lið taka þátt í verkefni bankans sem ber yfirskriftina Samfélag í nýjan búning. Í verkefninu gefur bankinn eftir auglýsingar á búningum liðanna en félögin velja sér gott málefni í staðinn.

Í tengslum við verkefnið greiðir Landsbankinn áheit fyrir hvern sigur Njarðvíkur og Keflavíkur í Iceland Express-deild karla og kvenna. Sú upphæð skiptist jafnt milli félagsins og málefnanna. Samtals greiddi bankinn 360.000 kr. vegna sigra Keflavíkur í kvennaog karladeildinni í vetur og 350.000 kr. vegna sigra Njarðvíkur – eða samtals 710.000 kr. Bæði málefni höfðu áður fengið 500.000 styrk þegar verkefnið var kynnt á sínum tíma. Stuðningur bankans hefur nýst

báðum málefnum mjög vel. Aðstandendur verkefnisins Stöðvum einelti hafa skipulagt fyrirlestra fyrir alla foreldra og þjálfara hjá körfuknattleiksdeild Njarðvíkur um birtingarmyndir eineltis. Hópefli var skipulagt fyrir nemendur 6. og 7. bekkjar í Njarðvíkurskóla um vináttu og samvinnu. Loks fóru nemendur 9. bekkjar á leikritið „Hvað ef “ í Borgarleikhúsinu. Styrkur bankans til Krabbameinsfélags Suðurnesja hefur verið nýttur í margvíslegt fræðslustarf um krabbamein, stuðning við krabba-

meinssjúklinga og loks rann hluti styrkfjárins til tækjakaupa fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. „Við erum mjög stolt af því að vera bakhjarlar beggja liða sem hafa staðið sig gríðarlega vel í vetur og síðustu ár. Með verkefninu Samfélag í nýjan búning viljum við tengja saman í gegnum bankann íþrótta-

félög og samtök eða félög sem láta að sér kveða í mannúðarmálum og gefa um leið íþróttafélögum, stuðningsmönnum þeirra eða styrktaraðilum kost á að taka þátt í að styðja við mannúðarmál í félagi við Landsbankann,“ segir Einar Hannesson, útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ.

BARNAGOLF

GOLFKLÚBBUR SUÐURNESJA HELDUR BARNANÁMSKEIÐ Í GOLFI FYRIR BÖRN Á ALDRINUM 7 - 12 ÁRA. Byrjendanámskeið í golfi á Hólmsvelli Leiru. Námskeiðin verða á þriðjudögum og fimmtudögum í sumar og er hvert námskeið fjögur skipti, 90 mínútur í senn.

BYRJENDANÁMSKEIÐ 1

5. - 14. júní, kl. 18:00 - 19:30 Markmið: Pútt, vipp, sveifla, helstu golf- og siðareglur

BYRJENDANÁMSKEIÐ 2

5. - 14. júní , kl. 20:00 - 21:30 Markmið: Pútt, vipp, sveifla, helstu golf- og siðareglur Frá afhendingu áheita Landsbankans til Keflavíkur og Krabbameinafélags Suðurnesja og Njarðvíkur og verkefnisins Stöðvum einelti. Frá vinstri: Sigfús Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri Njarðvíkurskóla, Elvar Már Friðriksson, Ásdís Vala Freysdóttir, Einar Hannesson útibússtjóri, Bryndís Guðmundsdóttir, Valur Orri Valsson, Jón Axelsson, gjaldkeri Krabbameinsfélagi Suðurnesja, Guðmundur Björnsson formaður Krabbameinsfélags Suðurnesja og Sævar Sævarsson körfuknattleiksdeild Keflavíkur.

SUMARSTARF Í SUNDMIÐSTÖÐINNI

Innifalið í námskeiðinu er 50% afsláttur af sumarpassa á Jóelinn.

Verð: kr. 12.000

Skráning er á erlagolf@gmail.com PGA kennarar Erla Þorsteinsdóttir og Rögnvaldur Magnússon

ATVINNA

Heklugos á Suðurnesjum í kvöld

Á

ætlað er að Hek lugos á Suðurnesjum hefjist kl. 19:30 í kvöld, fimmtudaginn 31. maí, í þróunarsetrinu Eldey þar sem kynnt verður kraumandi hönnun á svæðinu. Hátt í 40 hönnuðir taka þátt en að viðburðinum standa Eldey, SKASS og Menningarráð Suðurnesja. Dorrit Moussaieff verður heiðursgestur kvöldsins sem hefst með afhendingu styrkja Menningarráðs Suðurnesja. Boðið verður upp á lifandi tónlist og léttar veitingar en að því loknu mun Ragnheiður Friðriksdóttir kynna hönnunarferðir Reykjavík Concierge. Þá hefst glæsileg tískusýning kl. 20:30 undir dyggri stjórn Helgu Bjargar Steinþórsdóttur og Suðurnesjamannsins Arnars Gauta frá Elite. Anna Ósk Erlingsdóttir ljósmyndari mun mynda sýninguna en þess má geta að samið hefur verið sérstakt lag fyrir sýninguna og er það eftir ungan Suðurnesjamann, ívar Marrow Arnþórsson sem er nýútskrifaður úr Myndlistarskóla Reykjavíkur. Að því loknu verða vinnusmiðjur hönnuða í húsinu opnar og hægt verður að skoða sýningu hönnuða frá Suðurnesjum. Bláa lónið og Sif Cosmetics munu kynna vörur sínar. Fríhöfnin, Íslandsbanki og Kadeco styrkja viðburðinn. Heklan hvetur sem flesta Suðurnesjamenn til þess að mæta og kynna sér það sem hönnun á Suðurnesjum hefur upp á að bjóða.

Óskum eftir að ráða í sumarafleysingu til loka ágúst, sundlaugarvörð/ baðvörð í kvennaklefum Um er að ræða vaktavinnu og þarf viðkomandi að geta hafið störf strax. Lágmarksaldur er 22 ára Upplýsingar veitir Ragnar Örn Pétursson í síma 421-6700 eða á netfangið ragnar.petursson@reykjanesbaer.is Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf , eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum. Umsóknarfrestur er til 5. júní.

Stál og plast þakrennur Allir fylgihlutir fáanlegir

BARNAGOLF

GOLFKLÚBBUR SUÐURNESJA HELDUR BARNANÁMSKEIÐ Í GOLFI FYRIR BÖRN Á ALDRINUM 7 - 12 ÁRA Staðsetning: Hólmsvöllur Leiru, mæting er í golfskálann. Markmið: Að börnin læri undirstöðuatriðin í golfi í gegnum æfingar og leiki. Golf- og siðareglur er varða framkomu og umgengni á golfvelli. Á föstudögum eru spiladagar á Jóelnum (litli völlur GS). Um leið og barn lýkur námskeiði er það velkomið á alla spiladaga sumarsins. Námskeiðin: • 11. - 15. júní • 18. - 22. júní • 25. - 29. júní • 02. - 06. júlí • 09. - 13. júlí • 16. - 20. júlí • 23. - 27. júlí Tímabil: Hægt er að velja að vera fyrir hádegi kl. 9:00 - 12:00 eða eftir hádegi kl.13:00 - 16:00 Skráning: Nánari upplýsingar og skráning er á erlagolf@gmail.com eða í síma 899 2955

Frábært verð!

Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum

– Afslátt eða gott verð? Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

Gjald: Námskeiðsgjald er kr. 9000, innifalið í gjaldinu er sumarkort á Jóelinn. Yfirumsjón: Erla Þorsteinsdóttir, PGA kennari Karen Guðnadóttir, leiðbeinandi


16

FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

›› Bræðurnir á Bryggjunni í Grindavík:

›› Fjórhjólaævintýri í Grindavík:

Ævintýri við náttúruperlur Grindavíkur

Kaffihús með sérstöðu og sál

K

affihúsið Bryggjan var stofnað árið 2009 er þeir bræður Aðalgeir og Kristinn Jóhannssynir fundu fyrir samdrætti á netaverkstæði sínu sem er til húsa í sömu byggingu og hýsir nú kaffihúsið vinsæla við höfnina í Grindavík. „Við höfðum upphaflega nóg að gera með okkar netaverkstæði sem var hér til húsa. Síðan hefur orðið breyting á sjávarútveginum hérna í Grindavík og eru nánast allir okkar kúnnar farnir héðan burt. Verkefnastaðan hjá okkur minnkaði og því varð að reyna að finna upp á einhverju nýju að gera,“ segir Kristinn er hann sest niður með blaðamanni Víkurfrétta. Kristinn segir að þeir bræður hafi orðið varir við það að ferðamönnum væri sífellt að fjölga í Grindavík og staðsetningin á húsnæðinu hafi talist góð til þess að reka kaffihús. „Það var ekkert svona í Grindavík og okkur datt í hug að láta reyna á þetta. Við vissum ekkert hvað kaffihús snerust um, og vitum það kannski ekki enn,“ segir Kristinn en hann segir það hafa verið haft að leiðarljósi að koma með eitthvað svona nýtt og spennandi í heimabyggðina, stað sem fólk gæti komið á og fengið sér kaffi og kökur. Meira er gert en að selja kaffi og blómstar menning í kaffihúsinu við höfnina. Þarna er flutt tónlist og horft á fótbolta og svo hafa farið þarna fram skemmtilegar umræður sem kallast milliliðalaust á Bryggjunni. „Þetta snýst um það að þá koma hér aðilar og ræða ýmis málefni. Hér hafa t.d. allir bæjarfulltrúar

komið og svarað spurningum bæjarbúa,“ en þessar umræður fara alltaf fram á miðvikudagsmorgnum. Kristinn segir að þar skapist sérstakt návígi við þá aðila sem sitja fyrir svörum en þar á meðal hafa verið þingmenn og ráðherrar. „Menn eru ófeimnir við að spyrja og allt er leyfilegt, svo lengi sem það sé innan þess ramma sem menn kalla mannasiði,“ segir Kristinn. Hann segir spurningarnar oft vera hvassar og stundum sé tekist á svo úr verður lífleg morgunstund. Andrúmsloftið hjá þeim bræðrum er frekar frjálslegt og er bæjarbúum frjálst að koma með ljósmyndir og aðra muni til þess að hengja upp á veggina. Þannig er saga Grindavíkur að einhverju leyti skráð á veggi Bryggjunnar en einnig er þar athuglisverð tafla með ýmsum nöfnum. Þar getur að líta aflakónga Grindavíkur frá árinu 1945 til ársins 1984, það var árið þegar kvótakerfið kom á, en áður kepptust menn um að veiða sem mest og var mikill heiður að verða aflakóngur. Geta þeir bræður þulið upp sögu hvers og eins aflakóngs og söguna bak við mennina og bátana ef gestir óska þess. Alltaf er boðið upp á súpu í hádeginu og er humarsúpan á staðnum sérstaklega vinsæl. Það er virkilega heimilislegt um að litast á kaffihúsinu og ekki skemmir útsýnið fyrir en þar blasir höfnin við í öllu sínu veldi. Kristinn segir erlenda ferðamenn sérstaklega hrifna af því að sitja þarna og fylgjast með lífinu við höfnina enda ekki mörg kaffihúsin í heiminum sem státa af svona umhverfi. n

„Þetta er búið að vaxa jafnt og þétt síðan við byrjuðum fyrir rúmum fimm árum. Það eru þrír í fastri vinnu en það getur farið upp í alveg 15 manns sem starfa í kringum þetta um helgar þegar mest lætur,“ segir Kjartan Sigurðsson hjá Fjórhjólaævintýri í Grindavík. Fyrirtækið sérhæfir sig í að taka á móti hópum af öllum stærðum og skipuleggur allt frá óvissuferðum til árshátíða og fjölskylduhátíða. Ferðirnar eru tilvaldar fyrir vinnustaðahópa, vinahópa, fjölskyldur og alla þá sem áhuga hafa á hreyfingu og útiveru. Kjartan segir að það sé nokkuð jafnt flæði í aðsókninni árið um kring og því séu þeir heppnir að því leyti, en Kjartan á fyrirtækið ásamt Jakobi Sigurðssyni bróður sínum og Sigurði Óla Hilmarssyni. „Það er sem sagt ekki alger geðveiki hjá okkur á sumrin og við erum kannski frábrugðnir öðrum ferðaþjónustufyrirtækjum að því leyti.“ Að vísu er meira að gera á sumrin en þá sæki einstaklingar meira í að komast í fjórhjólatúra, en hópar á veturna. Eru þetta aðallega erlendir ferðamenn? „Núna eru þetta meira Íslendingar en svona að jafnaði þá eru þetta 6070% erlendir ferðamenn. „Við fáum ekki beint fólk vegna Lónsins en megnið af okkar kúnnum fara líka þangað. Maður bjóst við því að meira fólk kæmi þaðan en það virðist ekki vera. Fólk er hugsanlega að nýta daginn alveg í Lóninu.“ Kjartan segir leiðirnar allar vera mjög flottar en Sandvíkin þar sem Clint Eastwood tók upp á sínum tíma er þó í aðalhlutverki. Brúin

milli heimsálfa er líka afar vinsæl. „Það virkar vel á útlendingana að sjá hvar flekarnir rísa upp og geta labbað yfir brúna. Þeir sem eru að fara gullna hringinn finnst gaman að sjá muninn á flekunum á Þingvöllum og hérna hjá okkur. En hvernig er sumarið framundan? „Ég held að það verði mjög gott og nú þegar eru komnar nokkuð af bókunum.“ Fyrirtækið sér ekki eingöngu um fjórhjólaferðir heldur er t.d. boðið upp á hellaskoðanir, fjallahjólaferðir og hópefli. „Við erum með átta skipulagðar ferðir á dag og þær eru frá klukkutíma og upp í sjö tíma. Svo er hægt að fá einkaferðir hvenær sem er. Svo vorum við að bæta við ansi skemmtilegu tæki en það er fjögurra manna Buggy-bíll sem er einn sinnar tegundar. Það er flott tæki til þess að ferðast um hálendið og í sandi.“ Jakob segir að aukningin hafi verið um 35% á hverju ári síðan þetta ævintýri byrjaði hjá þeim og alltaf sé jafn gaman að fást við þetta. „Þetta er fjölbreytt starf og maður er alltaf að hitta nýtt fólk.“ Jakob segir hópeflið verða sífellt vinsælla en þar þarf fólk að leysa ýmsar þrautir í sameiningu og keppir innbyrðis. „Fólk verður þá oft æst og uppveðrað þegar keppni er í spilunum.“ Jakob er sammála því að Grindavík sé í auknum mæli að verða vinsæll ferðamannabær enda sé þar mikið af náttúruperlum. Jakob segist líka sjá í auknum mæli að Suðurstrandarvegurinn sé að koma með aukna umferð til Grindavíkur og Suðurnesjanna allra, sem eru bara jákvæðar fréttir fyrir svæðið. n

LEIKJANÁMSKEIÐ Á VEGUM GRINDAVÍKURBÆJAR SUMARIÐ 2012 Námskeið 6 – 9 ára og 10 - 12 ára: (Tvö aðskilin námskeið) Námskeið 1: 06. júní - til 15. júní Námskeið 2: 18. júní - 29. júní Námskeið 3: 02. júlí - 13. júlí Námskeið 4: 16. júlí - 27. júlí Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn á aldrinum 6–12 ára (fædd 2006 og fyrr) þar sem viðfangsefnin eru skemmtileg og uppbyggjandi. Mikið er lagt upp úr útiveru. Þátttakendur eiga að hafa með sér hollt og gott nesti og í samræmi við lengd viðveru. Miðað er við að börnin séu í virkri dagskrá frá kl. 09:00 - 16:00. Hægt er að kaupa gæslu frá kl. 08:00 - 09:00 og frá kl. 16:00 - 17:00. Leikjanámskeiðin munu hafa aðsetur í skólaseli Hópsskóla. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is Umsóknareyðublöðum skal skilað á bæjarskrifstofuna. Umsóknarfrestur fyrir fyrsta námskeið er til hádegis þriðjudaginn 5. júní. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Úr fjórhjólaferð austan Grindavíkur á fallegum degi.


17

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012

›› Andrea Björg Jónsdóttir með hæstu einkunn frá FS:

Dúxinn verðlaunaði sig með iPhone

A

ndrea Björg Jónsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi þegar útskrift Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram um síðastliðna helgi. Andrea segist stefna á læknisfræði en hún heillaðist af læknisfræðinni þegar hún fór á háskóladagana á síðasta ári. „Þá sá ég mig ekki vera neitt annað en lækni í framtíðinni,“ sagði Andrea í samtali við Víkurfréttir. Andrea fékk einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur í ensku, fyrir spænsku og hún fékk gjöf frá danska sendiráðinu fyrir árangur sinn í dönsku. Andrea Björg fékk viðurkenningar frá skólanum fyrir árangur sinn í stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði og hún fékk einnig gjafir frá Íslenska stærðfræðafélaginu og Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir árangur sinn í stærðfræði og frá Háskólanum í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi. Andrea Björg fékk svo 100.000 kr. styrk úr Skólasjóði Fjölbrautaskólans fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi. Landsbankinn veitti Andreu svo viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og góðan árangur í tungumálum, stærðfræði og raungreinum. Skipulag er númer eitt, tvö og þrjú að mati Andreu þegar kemur að náminu en hún segir það einnig mikilvægt að vera þolinmóður og hafa gaman af náminu. „Ég hef alltaf verið mjög skipulögð, en að mínu mati er skipulag númer eitt, tvö og þrjú. Það hjálpaði mér einnig mjög mikið að vinna jafnt og þétt, ekki fresta hlutunum fram á síðustu stundu,“ segir Andrea. Andrea hélt stóra útskriftarveislu um síðustu helgi þar sem hún bauð fjölskyldunni og vinafólki, en síðan

komu vinir hennar í heimsókn um kvöldið á útskriftardeginum. Hún gerði svo vel við sig í tilefni áfangans og keypti sér iPhone. „Það var smá útskriftargjöf frá mér til mín,“ en Andrea hefur tvö síðustu ár unnið í Kaskó í Keflavík með skólanum. Hún segir það vera mjög þægilega vinnu með skóla. Uppáhalds fag Andreu hefur alltaf verið stærðfræði, en hún hefur alltaf átt tiltölulega auðvelt með að skilja hana að eigin sögn. „Ég sá samt hvað ég hafði gaman af að læra um mannslíkamann þegar ég fór í LOL (líffæra- og lífeðlisfræði) áfangana í FS. Mér fannst þeir rosalega skemmtilegir.“ Andrea æfði sund á árum áður en hún hefur mjög gaman af ýmiss konar hreyfingu. „Ég hef haldið áfram að stunda líkamsrækt á hverjum degi eftir að ég hætti, enda þekki ég ekki neitt annað. Vinir mínir hafa líka alltaf átt stóran part í mínu lífi, en ég kynntist einmitt bestu vinkonum mínum í gegnum sundið. Svo finnst mér einnig gaman að ferðast og sjá og upplifa nýja hluti. Ég ætla mér að vera dugleg að ferðast í framtíðinni.“ Andrea hafði upphaflega hugsað sér að fara í Menntaskólann í Reykjavík en ákvað að sækja um í FS þar sem hún var enn að æfa sund. Hún segist ekki sjá eftir þeirri ákvörðun en hún upplifði margt skemmtilegt í FS og kynntist fullt af frábæru fólki, bæði kennurum og nemendum. Andrea ætlar fyrst og fremst að vinna hjá bílaleigunni Hertz í sumar. Hún gerir svo örugglega eitthvað skemmtilegt þegar hún á frí, en segir það ekkert vera ákveðið.

Arnarkast á laugardaginn L augardaginn 2. júní næstkomandi mun Ernir, bifhjólaklúbbur Suðurnesja, halda sitt árlega Arnarkast, en þetta er leikur þar sem hjólað er um Reykjanesið og stoppað á fyrirfram ákveðnum stöðum þar sem kastað er teningum. Einnig verður tekið þátt í Sjóaranum síkáta með Grindjánum, í lokin eru síðan veitt verðlaun fyrir hæstu skorin. Þeir sem taka þátt í þessum leik greiða ákveðið þátttökugjald, eins og undanfarin ár mun ágóðinn renna til góðs málefnis. Að þessu sinni mun klúbburinn styrkja Fjölskylduhjálp Íslands á Suðurnesjum Hjólakveðjur, stjórnin.

Neftóbak í salerni

Ö

ryggisgæsla í Flugstöð Leifs Eiríkssonar tilkynnti á föstudag lögreglunni á Suðurnesjum um grunsamlegan poka í almenningssalerni í flugstöðinni. Pokinn var tekinn í vörslu lögreglu og afhentur tollgæslunni til skoðunar. Ekki reyndist vera um fíkniefni að ræða í pokanum, eins og grunur lék á í fyrstu, heldur innihélt hann líklegast neftóbak. Pokinn vóg um 530 grömm og var tóbakið blautt. Líklegt er talið að því hafi átt að sturta niður en það hafi ekki tekist. Pokanum verða til sýnis á stórglæsilegri sýningu - Boðið verður uppá kaffi og kökur fyrir gesti var fargað. Ýmis fyrirtæki verða með vörur til sölu og sýnis - húðflúr og airbrush - hoppukastalar og andlitsmálun fyrir börn, þannig að allir ættu að finna einhvað við sitt hæfi, bæði hjólafólk og aðrir gestir - Tónlistaratriði og margt fleira verður í boði - Kl. 15:00 verður Ellefu óku of hratt viðgerðarhlé fyrir utan höllina í Tjarnargrill rallýinu sem fer fram þessa sömu helgi llefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi Þannig að tilvalið er fyrir allt áhugafólk um mótorsport að láta sjá sig - Kveðja Ernir lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sjö hinna brotlegu ökumanna óku um Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði Dagana 06 - 10 júní er 90 kílómetrar á klukkustund. Sá sem hraðast ók mældist á 134 kílómetra hraða. Þá voru þrír staðnir að of hröðum akstri á Njarðarbraut Fræðsla - hugleiðsla - markþjálfun - bátar - hjól - þrek - göngur og einn á Grindavíkurvegi.

YFIR 100 HJÓL AF ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM

E

Heilsudagar í Kríunesi

Markmiðið er:

Basískur líkami. Hugafarsbreyting til framtíðar. Meðvitund um að líkaminn er musteri sálarinnar. Læra æfingar sem auðvelt er að viðhalda. Jóga

Með loftbyssu og skotfæri í Leifsstöð

L

ögreglunni á Suðurnesjum var nýverið gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Eigandinn, erlendur ferðamaður, kvaðst hafa komið með skipi frá Noregi og vera á leiðinni til Grænlands með flugi. Honum var gerð grein fyrir að óleyfilegt væri að ferðast með muni af þessu tagi og lagði lögregla síðan hald á loftbyssuna, tvo kassa af loftþrýstihylkjum og fjögur box af skotfærum.

n n i m í s a g n i s Auglý er 421 0001

Guðbjörn Gunnarsson Einka- markþjálfari

Anna Katrín Ottesen Sjúkraþjálfari

Matti Ósvald Stefánsson M.Th.-NLP Pr. Heilsuráðgjafi

Aðrir leiðbeinendur: Björn I. Stefánsson framkvæmdastjóri Örn Jónsson nuddari

Nánari upplýsingar og skráning: Sími 8972400 www.kriunes.is ingi@kriunes.is


18

FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Afhentu afrakstur afmælistónleikanna í minningarsjóð Vilhjálms

A

ðstandendur tvennra tónleika sem haldnir voru í tilefni 60 ára afmælis Myllubakkaskóla í vor létu afraksturinn 600 þús. kr. renna í minningarsjóð Vilhjálms Ketilssonar. Sigrún Ólafsdóttir, ekkja Vilhjálms tók við peningagjöfinni í Myllubakkaskóla. Minningarsjóðurinn var stofnaður eftir fráfall Vilhjálms sem var skólastjóri í Myllubakkaskóla í nærri aldarfjórðung eða frá 1978 til 2003 en hann varð bráðkvaddur 6. september það ár. Vilhjálmur var bæjarstjóri í Keflavík í tvö ár á þessu tímabili, árin 1986-88. Veitt hafa verið verðlaun og styrkir árlega úr

minningarsjóðnum við skólaslit í Myllubakkaskóla. Haldnir voru tvennir tónleikar 1. apríl undir heitinu „Gamli skólinn minn“ og komu margir þekktir keflvískir tónlistarmenn fram, m.a. Magnús Kjartansson, Gunnar Þórðarson, Valdimar, Elísa Newman og fleiri og gáfu þeir vinnu sína sem og langflestir sem komu að vinnu við tónleikana. Þær stöllur Íris Dröfn Halldórsdóttir, Freydís Kneif Kolbeinsdóttir og Gunnheiður Kjartansdóttir voru í eldlínunni við undirbúning og framkvæmd tónleikanna og þökkuðu þær öllum sem komu að þeim.

Starfs- og siðareglur kjörinna fulltrúa í Sveitarfélaginu Vogum Á bæjarstjórnarfundi í Sveitarfélaginu Vogum þann 23. maí voru samþykktar samskipta- og siðareglur kjörinna fulltrúa í Sveitarfélaginu Vogum. Í re g lunum er nú í fyrsta skipti kveðið á um hlutverk bæjarfulltrúa gagnvart íbúum sveitarfélagsins, stjórnendum og öðrum starfsmönnum þess. Sérstaklega er kveðið á um að hver og einn bæjarfulltrúi beri skylda til að rökstyðja ákvarðanir sínar fyrir bæjarbúum og tilgreina þá þætti sem ákvarðanir þeirra eru byggðar á. Þetta ákvæði mun væntanlega tryggja vandaðan undirbúning bæjarfulltrúa og stuðla að málefnalegri umræðu um ákvarðanir bæjarstjórnar. Í reglunum er einnig kveðið á um ábyrgð og starfshætti ráðinna stjór-

nenda þar sem fram kemur að stjórnendum sveitarfélagsins beri að meta hag heildarinnar fram yfir hag einstakra deilda eða einstakra starfsmanna og taka ákvarðanir í samræmi við það. Þannig er unnið að því að hver deild innan sveitafélagsins horfi til annarrar og stefnumótunar í sveitarfélaginu þegar einstaka ákvarðanir eru teknar. Í sveitarfélaginu Vogum verður stjórnendum og starfsmönnum skylt að láta ekki undan þrýstingi heldur bregðast við þegar þeir fá fyrirmæli sem eru ólögleg, brjóta í bága við siðferðiskennd þeirra eða fagleg sjónarmið. Sama á við ef starfsmaður verður var við ákvarðanir sem brjóta í bága við ákvarðanir bæjarstjórnar, þar með talið þessar starfs- og siðareglur. Starfsog siðareglurnar tekur því skref í þá átt að vernda tjáningarfrelsi starfsmanna og vernda þá gegn hugsanlegu órétti.

Í reglunum er einnig ítarlega kveðið á um samskipti kjörinna fulltrúa og starfsmanna og m.a. tekið fram að bæjarfulltrúum er aðeins heimilt að koma erindum í farveg fyrir milligöngu bæjarstjóra sem sér um að öllum laga- og formkröfum sé fullnægt. Starfsmönnum er óheimilt að leita til kjörinna fulltrúa varðandi málefni sem lúta að launakjörum og starfsumhverfi þeirra nema í þeim tilvikum sem það tengist almennri stefnumótun eða settum starfs- og siðareglum sveitarfélagsins. Það er ástæða til að fagna innilega þessum metnaðarfullu reglum sem nú eru lagðar til samþykktar. Reglurnar slá nýjan tón í stjórnsýslu bæjarins, þær eru ítarlegar og yfirgripsmiklar og verður án efa til að bæta það faglega starf sem unnið er í stjórnsýslu bæjarins. Inga Sigrún Atladóttir forseti bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Vogum

www.facebook.com/grasalaeknir.is

Gefðu því gaum hvað þú setur á húðina! H úðin okkar er stærsta líffæri mannsins og því mikilvægt að huga að því hvernig við hugsum um húðina og hvaða snyrti- og hreinlætisvörur við setjum á húðina daglega. Heilbrigður lífsstíll hefur vissulega áhrif á húðina til hins betra en efnin sem við setjum á húðina eru ekki síður mikilvæg þar sem þau eiga greiða leið inn í líkamskerfi okkar og geta haft truflandi áhrif á líkamann. Fjölmörg skaðleg kemísk efni finnast í okkar daglegu húðvörum en algengustu kemísku efnin sem við ættum að reyna sniðganga eru paraben rotvarnarefni, ilmefni, phthalates efni í rakakremum, sodium lauryl sulphates efni í sjampói, mineral oil, paraffin,

o.fl efni. Talið er að paraben efni geti haft hormónatruflandi áhrif á estrógen búskap og virkni þess verið tengd brjóstakrabbameini en tengsl þess við krabbamein hefur þó verið umdeild. Nú til dags stendur okkur til boða fjölmargar tegundir af íslenskum og erlendum lífrænum húðvörum og meðvitund fólks sífellt að aukast um áhrif og skaðsemi kemískra gerviefna á heilsuna. Við eigum að vera vandlát á vörunar sem við notum og skoða innihaldslýsingar og velja vörur sem eru unnar úr lífrænum efnum og jurtum, innihalda andoxunarefni og náttúrulegar olíur, og lausar við paraben efni. Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is

Gott leikskólanám er góður undirbúningur fyrir framtíðina Ný aðalnámskrá – breyttar áherslur Í byrjun þessa árs gaf Mennta- og menningarmálaráðuneytið út nýjar aðalnámskrár fyrir fyrstu þrjú skólastigin, leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Það sem meðal annars er nýtt við þessa útgáfu er að fyrstu þrír kaflarnir eru sameiginlegir í námskrám skólastiganna þriggja. Þetta markar tímamót í að mynda samfellu í námi barna á aldrinum 2ja til 18 ára og leggur skólum á öllum stigum þá ábyrgð á herðar að tryggja samhengi og samræmi í menntun frá leikskólum til háskóla. Menntastefnan sem birtist í aðalnámskrá leikskóla byggir á sex grunnþáttum sem eru rammi um leik og nám í leikskólum, en þeir eru: læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Allir þessir þættir eru jafn mikilvægir og tengjast innbyrðis og er þeim ætlað að skapa heildstæða sýn á skólastarfið. Góðir leikskólar í Reykjanesbæ Í Reykjanesbæ eru tíu leikskólar sem allir kappkosta að veita gott leikskólanám börnunum sem þar dvelja. Leikskólarnir eru mismunandi hvað varðar húsnæði, fjölda barna og hugmyndafræði sem unnið er eftir. Allir leikskólarnir vinna samkvæmt aðalnámskrá, einnig hefur hver leikskóli sína skólanámskrá þar sem nánari útfærsla á náminu og námsleiðunum er lagt fram. Innra starf leikskólanna í Reykjanesbæ er mjög fjölbreytt og metnaðarfullt. Þar eru skólar sem eru með viðurkenningu sem heilsuleikskólar, þar er áhersla lögð á hreyfingu, hollt mataræði og sköpun. Við erum með leikskóla sem hafa fengið viðurkenningar sem grænfána skólar en í þeim leikskólum er mikil áhersla á endurvinnslu og að virða náttúruna og umhverfi okkar. Ítalska uppeldisstefnan Reggio Emillia er rauði þráðurinn í starfinu á einum leikskólanum með áherslu á uppgötvunarnám barnsins í gegnum listir og sköpun. Fjölgreindakenning Howards Gardners er höfð að leiðarljósi í starfi í einum af leikskólum bæjarins en þar er áhersla á að allir hafa hæfileika og getu en á ólíkum sviðum.

Einnig eru leikskólar sem vinna eftir Hjallastefnunni sem er hugmyndafræði sem byggir á að vinna með styrkleika drengja og stúlkna í sitt hvoru lagi. Þá er ótalið að unnið e r me ð j ó g a o g slökun á nokkrum leikskólum. Lestrarkennsla og öflugt r it má lsum hver f i hefur verið fléttað inn í skólanámskrá flestra skólanna og er sá þáttur í mikilli sókn. Einnig hafa nokkrir leikskólar unnið mjög metnaðarfull þróunarverkefni í gegnum árin og mun handbók frá einu slíku verkefni líta dagsins ljós síðar á þessu ári og fjallar hún um hvernig hægt er auka orðaforða barna. Það er því óhætt er að segja að fjölbreytilegt og metnaðarfullt starf á sér stað í leikskólum bæjarins. Horft til framtíðar Nýjasta verkefni leikskólanna sem hefur verið í undirbúningi í vetur er innleiðing á framtíðarsýn Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar, en hún miðar að því að bæta námsárangur á Suðurnesjum með öflugri áherslu á læsi og stærðfræði á fyrstu tveimur skólastigunum. Leikskólastjórar ásamt sínu fólki og fræðsluskrifstofu hafa unnið góða undirbúningsvinnu í vetur, og eru áætlanir tilbúnar sem farið verður að vinna eftir næsta haust. Í undirbúningsvinnunni var sett fram sameiginlegt markmið allra leikskóla í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði. Markmiðið er að flétta læsi og stærðfræði í víðasta skilningi þess orðs inn í alla þætti leikskólastarfsins. Miðað er við að verkefnið nái yfir fimm ár og verður spennandi að fylgjast með framvindu þess. Hver leikskóli mun útfæra verkefnið í takt við áherslur sínar í skólanámskrá og munu kynna það fyrir foreldrum í haust og fá þá til liðs við okkur. Framtíðasýn fræðsluskrifstofunnar er metnaðarfullt þróunarverkefni. Í því felast bæði ný tækifæri og áskoranir sem leikskólarnir eru tilbúnir til að vinna að. Við getum með stolti sagt að í leikskólum Reykjanesbæjar séu sterkir innviðir, þar starfa metnaðarfullir kennarar, góðir stjórnendur og umfram allt eru þar frábær og dugleg börn. Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir, leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar

GALLERÝ

„HANS“ OG GRÉTU Vesturbraut 8

Loksins opnum við aftur eftir miklar breytingar. Gler, leir og trévörur í miklu úrvali. Bílskúrssala verður einnig þessa helgi í bilinu við hliðina. Notuð föt í ýmsum stærðum, skór, rúm, sumardekk og margt fleira. Hlökkum til að sjá ykkur, opnum kl. 11:00 laugardaginn 2. júní.


19

V�KURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012

Nåmskeið fyrir Þig? Hvað einkennir góð sambÜnd? � nÌstu viku verða stÜdd hÊr å landi sålfrÌðingarnir dr. John Gottman og kona h a n s d r. Ju l i e Schwartz Gottman, sem eru líklega eitt Þekktasta meðferðarpar ok k ar tíma og munu Þau halda almennan fyrirlestur um parsambandið miðvikudaginn 6. júní kl. 17 - 19 í HÜrpu. John og Julie hafa með rannsóknum å 3000 pÜrum og með eftirfylgd å Því rannsóknarstarfi Þróað aðferð sem Þau miðla af og deila með hlustendum sínum. HÊr er å ferðinni einstakt tÌkifÌri til að sjå og heyra frÌðimennina sjålfa fjalla um hvað Það er sem einkennir góð samskipti para og hjóna og hvernig pÜr, af Üllum gerðum, geta styrkt samband sitt. ReykjanesbÌr hefur síðastliðin år boðið upp å paraog foreldranåmskeiðið Barnið

komið heim Þar sem Gottmanaðferðinni er beitt til að styrkja parsambandið og bÌta uppeldisskilyrði barna og hafa å 3ja tug foreldra í ReykjanesbÌ kynnst åherslum Þeirra hjóna í gegnum Það frÌðsluefni. Hjónin koma hingað til lands å vegum Rannsóknarsetursins í barna- og fjÜlskylduvernd, Håskóla �slands og Håskólans í Reykjavík. �búum ReykjanesbÌjar býðst að sÌkja fyrirlesturinn Þann 6. júní nk. í HÜrpu å verði 2fyrir1, Þ.e. kr. 4.000 miðinn/kr. 8.000 fyrir parið. HÌgt verður að nålgast miða å fyrirlesturinn hjå Þjónustuveri ReykjanesbÌjar, TjarnargÜtu 12 milli kl. 9.15 og 15.30 fram til 5. júní. Hera Ósk Einarsdóttir fÊlagsråðgjafi ForstÜðumaður stoðdeildar fjÜlskyldu- og fÊlagsÞjónustu ReykjanesbÌjar

Viltu lĂŚra að tĂ­na & nota Ă­slenskar lĂŚkningajurtir? ✤ Hvernig ĂĄ að tĂ­na, Ăžurrka og geyma jurtir ✤ Hvernig er best að tĂ­na og við hvaða aðstÌður ✤ Hvernig ĂştbĂşa ĂĄ jurtablĂśndur ĂĄ einfaldan hĂĄtt ✤ Ă hrif algengra lĂŚkningajurta og notkun Ăžeirra

Nåmskeiðið verður haldið 7. júní kl. 18.30 - 20.30 í Húsinu Okkar Hringbraut 108, Keflavík. Farið verður å tvo tínslustaði og jurtir skoðaðar úti í nåttúrunni. Verð 4900 kr. Þåtttakendur Þurfa að klÌða sig eftir veðri og hafa meðferðis skÌri og ílåt undir jurtir og e.t.v. flórubók.

upplýsingar og skråning

| s. 899-8069

|

asdis@grasalaeknir.is

Auglýsing um atkvÌðagreiðslu utan kjÜrfundar vegna kjÜrs forseta �slands UtankjÜrfundaratkvÌðagreiðsla vegna forsetakjÜrs, sem fram å að fara 30. júní 2012, er hafin hjå sýslumanninum í Keflavík, og verður sem hÊr segir å skrifstofum sýslumannsins í Keflavík, Vatnsnesvegi 33, ReykjanesbÌ og Víkurbraut 25, neðri hÌð, Grindavík: ReykjanesbÌr: s !LLA VIRKA DAGA FRÉ OG ME¥ JÞNÓ TIL OG ME¥ JÞNÓ FRÉ KL TIL s !LLA LAUGARDAGA Ó JÞNÓ ¤ M T É KJÚRDAG JÞNÓ VER¥UR OPI¥ FRÉ KL TIL Grindavík: !¥EINS OPI¥ VIRKA DAGA SEM H�R SEGIR s !LLA VIRKA DAGA TIL OG ME¥ JÞNÓ FRÉ KL TIL s $AGANA JÞNÓ FRÉ KL TIL AtkvÌðagreiðsla å sjúkrahúsum og dvalarheimilum aldraðra fer fram 26.-28. júní nk. skv. nånari auglýsingu å viðkomandi stofnunum. Kjósanda, sem ekki getur sótt kjÜrfund å kjÜrdegi vegna sjúkdóms, fÜtlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvÌði í heimahúsi nema hann eigi kost å að greiða atkvÌði å stofnun. Ósk um að greiða atkvÌði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lÜgråða manns um hagi kjósandans og hafa borist kjÜrstjóra eigi síðar en kl 16:00 Þriðjudaginn 26. júní 2012. Slík atkvÌðagreiðsla må ekki fara fram fyrr en Þremur vikum fyrir kjÜrdag.

Sýslumaðurinn í Keflavík 31. maí 2012 Þórólfur Halldórsson sýslumaður

n Auglýsingadeild í síma 421 0001 n FrÊttadeild í síma 421 0002 n Afgreiðsla í síma 421 0000

FrĂŠttavakt allan sĂłlarhringinn Ă­ sĂ­ma 898 2222


2 20

VÍKURFRÉTTIR

FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012 • VÍKURFRÉTTIR Fimmtudagurinn 14. apríl 2011

sMÁAUGLÝsiNGAR – 421 0009 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS

TIL LEIGU

Nýuppgerð rúml. 3ja herb. jarðhæð í fjórbýli við Sunnubraut Keflavík. Laus strax. Leiga 100.000 kr. Húsaleigubætur já. Sér inngangur og sér bílastæði. Upplýsingar í síma: 864 4478 eftir 19:00.

ÓSKAST Óskað eftir íbúð til leigu Reyklaus einstæð móðir óskar eftir 2-4 herb. íbúð í Keflavík/Njarðvík frá 1. júlí. s 695 9739.

ÖKUKENNSLA Ökukennsla - akstursmat Tek að mér ökukennslu og akstursmat til almennra ökuréttinda. Hagstætt verð. Nánari upplýsingar eru á: www.aka.blog.is. Skarphéðinn Jónsson ökukennari s. 456-3170 og 777-9464

TIL SÖLU Innbú til sölu. Sjónvarpsskápur, ísskápur m/ frysti, sólstofuhúsgögn úr basti og eldhúsáhöld. Selt allt saman eða eitt og sér. Uppl. í síma 694 3450. Leikföng til sölu – opið hús á fimmtudag Er að hætta sem dagmamma og er því með fullt af leikföngum til sölu. Inni- og útileikföng, 6 Ikea matarstólar m/borði, einnig skiptiborð til sölu. Húsið verður opið frá kl. 16:00 18:30 þann 31. maí næstkomandi á Melteig 24, Keflavík. Anna

GARÐYRKJA Þekking og reynsla í garðinn Ráðgjöf varðandi garðinn í sumar frá reyndum garðyrkjufræðingi. Öll almenn umhirða. Grænu karlarnir sími 481 1060 og 848 2418.

AFMÆLI

ÝMISLEGT

Á næstunni mun Víkurfréttir kynna ungt og efnilegt íþróttafólk af Suðurnesjunum bæði hér í blaðinu og með myndbandi á vf.is.

Fílar grjónagraut og lakkrís F

imleikastúlkan Thelma Hrund Helgadóttir er önnur í röðinni í þessum nýja lið þar sem við ætlum að kynna ungt og efnilegt íþróttafólk af Suðurnesjum. Hún er 14 ára og æfir hjá Fimleikafélagi Keflavíkur. Hún æfir 15-18 tíma á viku og segir að liðleiki og einbeiting nýtist vel í daglegu lífi. Hún lenti í 3. sæti á Innanfélagsmótinu hér í Keflavík fyrir stuttu síðan. Páll Orri Pálsson hjá Víkurfréttum spurði Thelmu nokkurra skemmtilegra spurninga.

Hvernig kom það til að þú byrjaðir að æfa fimleika? „Ég byrjaði að æfa fimleika og körfu. Svo líkaði mér bara betur við fimleika.“ Hvað heillar þig mest við fimleika? „Liðleikinn, styrkurinn og þolið sem maður þarf að hafa og þetta er bara mjög skemmtilegt.“ Hvernig undirbýrðu þig fyrir fimleikamót? „Við gerum bara æfingar á áhöldunum og gerum þær stanslaust þangað til að við náum því vel. Við gerum líka mikið af þreki.“ Hvað er leiðinlegast við æfingarnar? „Þegar þjálfarinn hlustar ekki á mann því það eru margar stelpur kannski að tala við hann í einu. Mér finnst líka ekki gaman á tvíslá.“

Tek að mér allskonar viðgerðir á bílum, sláttuvélum. Er með greiningartölvu til að bilanagreina margar tegundir bíla. Vanur maður, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð! Uppl. S: 864 3567.

En skemmtilegast? „Það er klárlega sláin og vera með vinkonunum á æfingu, þetta er allt skemmtilegt.“

Bói Rafvirki

raf-ras.is

896 0364

Tilkynning: Kolbrún Kristinsdóttir Sandgerði verður 60 ára þann 3. júní nk. Þau hjónin verða að heiman en verða með opið hús fyrir ættingja og vini í sumarhúsi nr. 12 í Skógarnesi við Apavatn.

www.vf.is Hafnargötu 35

Opið 11 – 18 Nánari upplýsingar í síma 421 5121

NÝTT

Forvarnir með næringu

Opið alla daga fram á kvöld

STAPAFELL

Hafnargötu 50, Keflavík

Hvað æfirðu mikið í viku í fimleikum? „Það eru svona 15-18 tímar á viku. Við erum fimm sinnum í þrjá tíma og stundum erum við á aukaæfingu sem kallast Tromp sem er trampólín æfing.“ Hvernig nýtast fimleikar þér í daglegu lífi? „Ábyggilega liðleikinn og þú þarft að vera mjög einbeittur í fimleikum sem nýtist bara mjög vel í daglegu lífi.“

Skartsmiðjan Skart Perlur Tölur Lokkar Keðjur Skraut Steinar Pinnar Lásar Vír Öskjur Kúlur Hraun Tangir Roð Nælur Hringir Leður

Áttu þér einhver markmið í fimleikum? „Bara reyna að ná eins langt og ég mögulega get.“

HEILLAÓSKIR

Hver er uppáhalds greinin þín í fimleikum? „Klárlega slá, það er uppáhaldið mitt.“

Þau heiðurshjón, Áslaug Hilmarsdóttir og Trausti Björnsson halda bæði upp á 80 ára afmæli sitt í ár. Áslaug þann 3. mars sl. og Trausti 2. júní nk. Bíbi, Bára og fjölskyldur vilja af þessu tilefni senda þeim hugheilar árnaðaróskir með ómældu þakklæti fyrir allt.

Þjónustumiðstöðin Nesvöllum Vikan 29. maí - 5. júní nk. • Bingó • Bridge • Gler- keramik- og leirnámskeið • Leikfimi • Hádegismatur Léttur föstudagur1. júní kl.14:00 Leikskólinn Gimli Nánari upplýsingar í síma 420 3400

Sjáið skemmtilegt video um þetta efni á vf.is

Hugar þú að mataræðinu? „Já, aðallega nokkrum dögum fyrir mót hugsa ég um að borða hollt og líka fyrir æfingar.“ Hver er fyrirmyndin þín í íþróttum? „Nastia Liukin frá Bandaríkjunum. Hún er einfaldlega bara besta fimleikakona í heiminum og bara uppáhaldið mitt.“

Uppáhalds! Matur: Grjónagrautur Sjónvarpsþáttur: Friends Kvikmynd: Stick It Drykkur: Kristall Tónlistarmaður: Beyonce

Hver er fremsti íþróttamaður í heiminum að þínu mati? „Spretthlauparinn Usain Bolt.“

Skyndibiti: Subway

Fylgistu með öðrum íþróttum? „Já, körfubolta og fótbolta. Mér finnst mjög gaman að horfa á það en ég gæti aldrei verið í þessu sjálf. Ég held með Liverpool í enska boltanum og svo bara Keflavík.“

Flík: Fimleikabolurinn minn

Segðu okkur aðeins frá þessu vinsæla myndbandi ykkar vinkvennanna sem þið settuð á YouTube. „Já, við vorum bara á æfingu og sláin var ekkert vön að vera þarna við vegginn og vinkona mín ætlaði bara að fara að labba út um hurðina. En hún einfaldlega labbaði bara á vegginn og við hlógum alveg endalaust af þessu.“

Til hamingju með 17 ára afmælið þitt í dag, Aníta Ósk Guðbjargardóttir. Hérna til hliðar er eitt og annað sem þú þarft að æfa þig á í tilefni dagsins. Eigðu góðan afmælisdag. Mamma, pabbi, Bárður Sindri, Birta María, Lotta, Píla og Matta.

Nammi: Lakkrís


21

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012

Lærum og leikum með hljóðin gerir samning við 365 miðla

SJÓMANNADAGURINN

N

ýlega undirrituðu Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur og Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri samning um að sýna myndefni Lærum og leikum með hljóðin sem hluta af barnaefni á sjónvarpsrásum 365 miðla. Fyrstu sýningar hefjast haustið 2012 og verður notað myndefni og lifandi tónlist sem Menningarráð Suðurnesja og Samfélagssjóður Landsbankans styrktu. Myndefnið hefur fengið mjög góðar viðtökur hjá börnum, foreldrum og skólum um allt land. Hér er um séríslenskt efni að ræða, með lifandi tónlist, sem er mikilvægt framlag til menningar og undirbúningsfærni barna fyrir hljóðmyndun og lestur. Bryndís Guðmundsdóttir mun fylgja efninu úr hlaði og var m.a. greint frá samningnum á nýafstöðnu námskeiði Lærum og leikum með hljóðin sem var haldið fyrir Fræðsluskrifstofur á Norðurlandi. Myndefni Lærum og leikum með hljóðin verður sýnt í litlum þáttum þar sem færi gefst á að vinna skipulega í samstarfi við skóla og fjölskyldur með hvert og eitt málhljóð. Ýmis ný verkefni eru á döfinni hjá Raddlist sem gefur út og framleiðir Lærum og leikum með hljóðin. Fyrirhuguð er spjaldtölvuútgáfa og útgáfa á nýju efni í hljóðkerfisvitund sem byggir á aðferðafræði Lærum og leikum með hljóðin; Hljóðalestin, auk þess sem útgáfa og rannsóknavinna erlendis er í undirbúningi.

Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Dagskrársviðs 365 miðla og Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri sem hér eru með Bryndísi Guðmundsdóttur handsöluðu samninginn hjá 365 miðlum.

Sjómannamessa og dagskrá í Duushúsum sunnudaginn 3. júní kl. 11:00 - Sjómannamessa í Bíósal. Sr. Baldur Rafn Sigurðsson í Bíósal. - Stjórn Bátafélagsins afhendir ný bátalíkön - Safnstjóri Byggðasafnsins kynnir sjóminjar í eigu safnsins - Aldraðir sjómenn segja frá Í lok dagskrár verður lagður krans við minnismerki sjómanna. Sjómannadagstilboð á súpu á Kaffi Duus

HVAÐ EINKENNIR GÓÐ SAMBÖND?

n Auglýsingadeild í síma 421 0001 n Fréttadeild í síma 421 0002 n Afgreiðsla í síma 421 0000

Opinn kynningarfundur um um endurskoðun Aðalskipulags Keflavíkurflugvallar Opinn kynningarfundur um endurskoðun Aðalskipulags Keflavíkurflugvallar 2012 - 2030, verður haldinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 3. hæð (Marklandi), fimmtudaginn 7. júní kl. 16:30 - 17:45. Þar verður almenningi og öðrum hagsmunaaðilum gefin kostur á því að kynna sér leiðarljós og áherslur vinnuhóps aðalskipulags Keflavíkurflugvallar. Á fundinum verður farið yfir helstu viðfangsefni sem eru mikilvæg fyrir hagsmuni og þróun Keflavíkurflugvallar. Að undanförnu hefur vinnuhópur aðalskipulags unnið að þarfagreiningu Keflavíkurflugvallar og hefur þar litið til flugbrauta, flugstöðva, flugþjónustu, öryggis flugumferðar, samgangna og veitna, og öryggissvæðisins. Á fundinum verða kynntar helstu niðurstöður greiningar og umfjöllunar um valkosti og þær tillögur og áherslur sem áframhaldandi skipulagsvinna mun fylgja. Tilgangur fundarins er að kynna þessar niðurstöður og er lögð áhersla á að fá fram sjónarmið og umræðu við framlögð gögn áður en haldið verður lengra í skipulagsvinnunni. Hægt verður að nálgast „Leiðarljós og áherslur skipulagsvinnu“, þann 6. júní á skrifstofu skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á heimasíðu Keflavíkurflugvallar: http://www.kefairport.is/Flytileidir/Um-felagid/Skipulagsmal Hægt verður að senda inn ábendingar um Leiðarljós og áherslur skipulagsvinnu til og með 5. júlí nk. Senda skal þær til skipulagsfulltrúa, Sigurðar H. Ólafssonar, á póstfangið shol@isavia.is eða á skrifstofuna, merktar Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar. Keflavíkurflugvelli, 29. maí 2012. F.h. Skipulagsyfirvalda á Keflavíkurflugvelli Sigurður H. Ólafsson, skipulagsfulltrúi.

Fyrirlestur með dr. John M. Gottman miðvikudaginn 6. júní kl. 17:00 - 19:00 í Hörpu. Viltu læra hvað einkennir góð sambönd og hvað einkennir sambönd sem ganga ekki upp. Er þitt samband eins og þú vilt hafa það? Býr sambandið yfir þeim eiginleikum sem eru nauðsynlegir til að það endist? Miða á fyrirlestur dr. John M. Gottman er hægt að kaupa hjá Þjónustuveri Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12 milli kl.09:15 – 15:30 fram til 5. júní. Miðaverð kr. 4000,-


22

FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Bið fólk um að taka mig úr fantasy-liðinu -segir Guðmundur Steinarsson

Þ

að má gera ráð fyrir því að þetta verði léttur og skemmtilegur leikur. Kristján vinur minn vill spila skemmtilegan bolta eins og við og því má búast við fjörugum leik,“ segir Guðmundur Steinarsson framherji Keflvíkinga en þeir fara á Hlíðarenda í kvöld og mæta þar Kristjáni Guðmundssyni og Valsmönnum. Með sigri geta Keflvíkingar farið upp í fjórða sæti en liðið er þessa stundina í því fimmta. „Við ætluðum fyrir mót að gera okkar heimavöll að vígi en við töpuðum gegn Stjörnunni á heimavelli og því verðum við að vinna það upp á útivelli, það væri ágætt að byrja á því núna,“ hann segist jafnframt vera svekktur með tapið gegn Stjörnunni og einnig gegn ÍA uppi á Skaga. „Þar hefði ég viljað ná í stig en svona heilt yfir þá er ég alveg þokkalega sáttur. „Það er dálítið verið að breyta um leikstíl frá síðustu tveimur árum og svo eru tveir ungir menn, þeir Frans (Elfarsson) og Arnór Ingvi (Traustason) að stjórna spilinu á miðjunni. Það er alltaf áhætta að fá svo unga leikmenn í þessi hlutverk en þeir hafa verið að standa sig mjög vel og það hefur í raun

útspark

tekið styttri tíma að púsla liðinu saman en ráð var gert fyrir. Hefðu þessir leikmenn átt að fá sénsinn í U-21 liði Íslands? „Það hefur nú oft verið þannig að þeir sem hafa verið að spila stór hlutverk í sínum liðum hafa verið að fá séns í landsliðunum. Mér finnst alla vega skrýtið að þeir skuli ekki hafa verið kallaðir inn í hópinn a.m.k. Það er oft verið að velja menn sem eru á samningi erlendis bara af því að þeir eru þar. Þegar farið er að grafa dýpra þá eru þeir kannski ekkert að spila að ráði. Ég hefði alltaf tekið mennina sem eru í leikstandi og eru að skila sínu hérna heima.“ En hvernig er það, eiga menn að halda þér í fantasy-liðinu, fara mörkin að detta inn? „Ég segi nú yfirleitt fólki að taka mig úr liðinu, svo þegar ég fer að skora þá fæ ég einn öll stigin,“ segir Guðmundur og hlær. Að lokum vildi Guðmundur hvetja fólk til þess að mæta með rútunni á leikinn og spara sér bensínið.

Ómar Jóhannsson

Súrt tap, sætur sigur Ómar Jóhannsson, markvörður og starfsmaður í Fríhöfninni sparkar pennanum fram á ritvöllinn. Nú er fótboltasumarið komið á fullt og allir ánægðir. Við hjá Keflavíkurliðinu höfum verið frægir fyrir það að blása í einhverja blöðru af öllu afli í byrjun móts. Svo bíða allir spenntir eftir að blaðran springi, sem gerist stundum, og við sígum niður töfluna. Við höfum blásið heldur varlegar í blöðruna árið 2012 en síðustu sumur og farið rólegar af stað í stigasöfnun en oft áður. Að sjálfsögðu gerum við það ekki viljandi, fótboltinn er bara svona skrítinn. Stundum vinnurðu og stundum taparðu, það er að segja þegar leikirnir fara ekki jafntefli. Það þarf samt ekki að vera neinn dauði og djöfull þó að við förum rólega af stað. Spilamennskan hefur fyrir það mesta verið jákvæð og margir ungir og efnilegir leikmenn að byrja vel. Ef ég hefði fengið að ráða þá hefðum við reyndar verið búnir að vinna alla okkar leiki hingað til. Ég fæ engu að ráða, ég er bara markmaður. Það væri samt allt svo miklu einfaldara ef við gætum bara unnið alla leiki. Allt verður aðeins erfiðara og leiðinlegra þegar maður tapar. Ég verð aðeins erfiðari og leiðinlegri þegar ég tapa, spyrjið bara konuna mína. Maturinn eftir tapleik er ekki jafn góður og eftir sigur. Maður er lengur í gang á morgnana eftir tapleik heldur en sigurleik, í mínu tilfelli kemur það sér mjög illa, það þýðir að ég er farinn að virka í kringum hádegi eftir tapleik. Svo þegar kemur að æfingu eftir tapleik er hún langt í frá jafn skemmtileg og eftir sigur. Menn eru að hittast í fyrsta sinn eftir leikinn og kryfja hann. Það er ólíkt skemmtilegra að fara yfir eitthvað sem heppnast vel og var skemmtilegt heldur en lélegan tapleik fullan af mistökum. Sigurleikir eru fullir af mistökum alveg eins og tapleikir, þau eru bara auðveldlega fyrirgefin þar sem leikurinn vannst. Ég hef spilað einhverja fótboltaleiki um ævina og tapað nokkrum því miður og það venst aldrei. Ef maður venst því að tapa er maður í vondum málum. Maður lærir samt á sjálfan sig eftir nokkur ár í boltanum. Það er drullufúlt að tapa en ef maður ætlar að berja sig í hausinn eftir hvert tap er maður mjög líklega lengur að ná sér eftir það. Líkurnar á því að þú vinnir hljóta að minnka í hvert sinn sem þú brýtur þig niður í huganum. Sigrarnir eru fljótir að bæta upp allar slæmu tilfinningarnar sem fylgja tapleikjum. Eins og fyrir töfra verður allt betra og jákvæðara við að vinna leik. Við vorum búnir að tapa tveimur leikjum í röð áður en við mættum ÍBV. Ekki fallegasti sigur sem við höfum unnið en mikið ofsalega var hann ljúfur. Svo ljúfur að ég spáði Íslandi í fyrsta sæti í Júróvision partíinu á laugardaginn. Ekki mjög raunhæft kannski en mikið ofsalega er gaman að vinna.

Kominn tími á að Skaginn tapi - stórleikur á Sjóaranum síkáta

M

enn eru spenntir fyrir þessum leik og það er komin stemning í bæinn enda Sjóarinn síkáti að detta í gang,“ segir Óskar Pétursson markvörður Grindvíkinga en Grindvíkingar taka á móti taplausum Skagamönnum á laugardaginn klukkan 16:00 á laugardag. Óskar gerir sér grein fyrir því að ekki sé hægt að hrópa húrra fyrir gengi liðsins það sem af er tímabili og hann er ekki frá því að hann sé orðinn slappur í bakinu eftir að hafa náð í boltann úr netinu 16 sinnum í aðeins fimm leikjum. „Við erum fyrst og fremst að vinna í því að skipuleggja okkur varnarlega. Um leið og við náum að stoppa í götin þá verður þetta allt annað, því við erum með menn sem geta skorað,“ segir Óskar. Grindvíkingar létu tvo leikmenn fara í vikunni en það voru þeir Gavin Morrison og Jordan Edridge sem ekki þóttu standa undir væntingum. „Það er leiðinlegt að missa þá því maður var búinn að kynnst þeim. En þetta er bara ákvörðun sem er tekin og við bara stöndum og föllum með henni og gott að sjá að eitthvað er verið að gera til að breyta genginu.“ Óskar segist bíða spenntur eftir því að sjá leikmann eins og Hafþór Ægi koma á völlinn aftur en hann hefur verið mikið meiddur síðustu árin. Hafþór, ásamt Paul McShane og Magnúsi Björgvinssyni, eru allir að stíga upp úr meiðslum og eiga vafalaust eftir

Birgir Leifur bestur á Hólmsvelli í Leiru B

irgir Leifur Hafþórsson, besti kylfingur Íslands sigraði á fyrsta móti Eimskipsmótaraðarinnar í golfi sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru um síðustu helgi. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslandsmeistari kvenna 2011 var best í kvennaflokki. Birgir Leifur lék mjög gott golf, var fyrri daginn á pari í miklum vindi en lék seinni hringinn á 4 undir

pari og vann með tveimur höggum. Annar varð Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Klúbbmeistari Golfklúbbs Suðurnesja, Guðmundur Rúnar Hallgrímsson varð í 25. sæti og náði sér ekki á strik í mótinu. Klúbbmeistari kvenna hjá GS, Karen Guðnadóttir varð í 11. sæti af 25 þátttakendum í meistaraflokki kvenna.

að styrkja sóknarleik Grindvíkinga. „Það er samt engin markastífla hjá okkur, við verðum bara að hætta að fá öll þessi mörk á okkur.“ Í síðasta leik náðu Grindvíkingar að skora tvö mörk undir lokin og jafna 3-3 gegn Selfyssingum og krækja í stig. „Það er alltaf gaman að koma til baka en ég hefði viljað skora eitt í viðbót og stela sigrinum,“ sagði Óskar. Hvernig verður að mæta Skagamönnum? „Þeir eru með sterka leikmenn og það er sjálfsagt hugur í mönnum enda hefur þeim gengið vel. Við erum samt bara betri ef eitthvað er á móti þessum svokölluðu stóru liðum þannig að ég held að það verði bara helvíti gaman á laugardaginn. Það er kominn tími til þess að þeir tapi og við náum að fylla völlinn,“ sagði Óskar að lokum.

Birgir Leifur á teig á 3. braut, Bergvíkinni þegar Kári blés duglega.

VF-mynd/pket.


23

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. maí 2012

VERTU KEFLVÍKINGUR Á

KOMIÐ MEÐ Á HLÍÐARENDA VODAFONEVÖLLUR

Sætaferðir kl.

18:00

VALUR - KEFLAVÍK Í KVÖLD KL.19.15 MIÐI Í RÚTUNA FÆST Á WWW.MIDI.IS KR. 1200,-

FISKVERKUNIN HÁTEIGUR


auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 vf.is

Fimmtudagurinn 31. maí 2012 • 22. tölublað • 33. árgangur

KOMDU

FIMMTUDAGSVALS Valur Ketilsson skrifar

Í GOLF

Ekki á allt kosið

H

ér í sumarhúsahverfinu á Spáni ríkja sérlög og reglur. Fimmtíu húsa hverfiseining skipar með sér nefnd, sem hefur sinn forseta, varaforseta og vara varaforseta. Við búum við hliðina á Bessastöðum. Miguel forseti ræður ríkjum hér. Sennilega bróðir San Miguel, bjórframleiðanda, sem selur okkur mjöðinn á slikk. Ég kann vel við að hafa hann hérna við hliðina á okkur. Passar upp á að allt sé í góðu lagi og skipar fyrir, ef honum finnst ekki farið eftir reglunum. Við urðum að saga sítrónutréð af því það skagaði inn á lóðina hans. Alveg niður í rót. Eina tréð okkar í garðinum. Farið.

E

n nú eru kosningar í nánd í hverfi sjö. Forsetakosningar. Atkvæðaseðlum var dreift í hús og þeim á síðan að safna saman í byrjun ágúst. Ég tjáði honum að við yrðum farin. Hann skilur ekki ensku. Ég tala ekki spænsku. Vantar Írisi mína. Þurfti leiðbeiningar við að fylla út kjörseðilinn. Hann hjálpaði mér við það. Nafn ábúendans og húsnúmer komst ég í gegnum. En hverjir eru í kjöri? Hann hjálpaði mér við það líka. Kaus fyrir mig. Sjálfan sig. „El presidente“ sagði hann og barði sér á brjóst. Benti á spænska fánann, sem blakti við hún á Bessastöðum. Ég fylltist lotningu við þetta ágæta kosningakerfi. Algerlega eftir sérlögum og reglum hverfisins.

E

kki allt búið ennþá. Hann kom því áleiðis að árgjöld hverfisins yrðu að greiðast fyrir haustið. Níu þúsund krónur, íslenskar. Eitthvað færri evrur. Staðgreitt. Kvittun og stimpill frá forsetanum gildir. Dugar fyrir raflýsingu í götunni, ruslagámi úti á götuhorni og grasslætti á mönum við gangstéttarnar. Ákvörðun um aðra kúpla á ljósastaurunum var tekin fyrir nokkrum árum og um það var kosið. Á íbúafundi eins og hjá Árna bæjó heima. Meirihlutinn valdi laglega vasalaga kúpla með svartri trjónu. Miklu flottara en hjá hinum, sem eru bara með kúlulaga kúpla. Hverfi sjö vildi bera af.

N

ú flokkum við ruslið líka. Dósir og flöskur í ávala gáma. Ruslið í kistulaga. Nýtilegt eða nothæft er lagt við hliðina. Hverfur yfirleitt á augabragði. Túpusjónvarpið fékk að fjúka. Dýnur og annað dót, sem komið var til ára sinni fór sömu leið. Nokkrum stundum síðar heyrðust hróp og skrækir. Einhverjir komust í góssið. Tóku það fegins hendi. Máttu það. Okkur leið vel á eftir. Grundig imbakassinn nýtist annars staðar. Fjarstýringin fylgdi með batteríum. Og nú sefur einhver í gamla bælinu. Okkar.

Í LEIRUNNI Skrifstofur Víkurfrétta flytja innan tíðar á 4. hæð í Krossmóa 4. Þetta er útsýnið þaðan.

Víkurfréttir vantar starfsmann í sölu og móttöku auglýsinga Óskum eftir að ráða hressan og duglegan einstakling í auglýsingadeildina okkar. Um er að ræða fullt starf. Viðkomandi þarf að hafa þjónustulund og vera góður í mannlegum samskiptum en jafnframt að vera skipulagður og hafa aga, hörku og dugnað til að geta selt auglýsingar í miðla fyrirtækisins. Góð íslenskukunnátta er mikilvæg og kunnátta á helstu tölvuforrit sem eru nauðsynleg í samskiptum og skipulagi er nauðsyn. Umsóknir er tilgreini allar helstu upplýsingar umsækjanda sendist á Pál Ketilsson, ritstjóra, á pket@vf.is.

NÝJAR MOTTUR Á ÆFINGASVÆÐINU. OPIÐ TIL 22:00 JÓEL 6 HOLU ÆFINGAVÖLLUR HENTAR VEL FYRIR BYRJENDUR

HAFIÐ SAMBAND Í SÍMA 421 4100 EÐA NETFANGIÐ GS@GS.IS

husa.is

BrjálAð verð á GArðdöGum, hefst á fimmtudAG 10%

Afslá ttur Af öl GArðh lum úsum

verðdæmi

sláttuvél

verð áður: 29.995 kr.

Nú: 23.995 kr.

iNN! ð r A G r i r y f Allt mikið úrvAl,

hluti af Bygma

Allt frá GruNNi Að Góðu heimili síðAN 1956


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
22.tbl by Víkurfréttir ehf - Issuu