• Fimmtudagurinn 9. júní 2016 • 23. tölublað • 37. árgangur
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Fyrstu skrefin í sameiningu?
Bæjarstjórn Garðs telur rétt að vfarin verði sú leið að skipaður verði starfshópur sem fái það hlutverk að vinna könnun á kostum og göllum mögulegrar sameiningar Sveitarfélagsins Garðs og Sandgerðisbæjar. Sú vinna sé grundvöllur að samráði við íbúa sveitarfélagsins um málið. Vegna hugsanlegrar könnunar á kostum og göllum sameiningar Sveitarfélagsins Garðs og Sandgerðisbæjar liggur fyrir samantekt á ýmsum upplýsingum um sameiningu sveitarfélaga, þar á meðal ákvæði Sveitarstjórnarlaga er varðar sameiningu sveitarfélaga. Bæjarstjórn Garðs samþykkti samhljóða á fundi sínum í síðustu vikua að málið verði áfram til umfjöllunar í bæjarstjórn. Bæjarstjórn Sandgerðis tók einnig til afgreiðslu umræðuskjal um sameiningu sveitarfélaga á fundi sínum fyrir helgi. „Fyrir fundinum liggur umræðuskjal vegna hugsanlegra viðræðna um kosti og galla sameiningar Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs. Bæjarstjóri fylgdi málinu eftir,“ segir í gögnum bæjarins. Allir bæjarfulltrúar tóku til máls undir umræðunni og var samþykkt að fresta afgreiðslu málsins.
Það var mögnuð sumarstemning við Melaberg á leið að Hvalsnesi í Sandgerði í vikunni. Hestar og fuglar undu sér vel í sól og kvöldblíðu. Hilmar Bragi var líka í sumargírnum með linsuna klára.
Ríkið komi að uppbyggingu í Helguvík n Þingmenn Suðurkjördæmis eru flestir á því að ríkið verði að koma að hafnarframkvæmdum í Helguvík til samræmis við það sem gert hefur verið á öðrum stöðum á landinu. Þingmenn og ráðherrar úr Suðurkjördæmi áttu á dögunum fund með hafnarstjórn Reykjaneshafnar þar sem farið var yfir þær framkvæmdir sem þegar hafa átt sér stað og hvað vanti uppá í höfninni svo hún sé í stakk búin að sinna þeim inn- og útflutningi sem verður um höfnina þegar tvö kísilver hafa risið í Helguvík.
Kísilver United Silicon er á lokametrunum og hefur framleiðslu innan fárra vikna. Fyrsti áfangi kísilvers Thorsil er áætlaður eftir 2-3 ár og þá þarf frekari aðstaða að vera tilbúin í höfninni. Lengja þarf viðlegukanta töluvert til að hægt sé að ráða við flutninga um höfnina en umsvif í Helguvík eru að aukast það mikið að gera má ráð fyrir skipum í höfn næstum alla daga ársins. „Mér líst ekkert á það að í tæplega tveggja kílómetra fjarlægð frá íbúabyggð, leikskóla og grunnskóla rísi tvö heimsins stærstu kísilver og 360
þúsunda tonna álver. En góðu fréttirnar eru þær að ekki eru miklar líkur á því að það gerist. Þó er ljóst að annað kísilverið er að rísa og því er mikilvægt að innviðir hafnarinnar geti þjónustað iðnaðarsvæðið,“ segir Oddný G. Harðardóttir alþingismaður Samfylkingar og nýkjörinn formaður Samfylkingarinnar í svari við spurningu Víkurfrétta um afstöðu til uppbyggingar sem er að eiga sér stað í Helguvík. Nánar er fjallað um málið og svör þingmanna má sjá á síðu 18 í blaðinu í dag.
FÍTON / SÍA
Landsliðsmennirnir okkar í fótbolta héldu af landi brott frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar til Frakklands á þriðjudag, þar sem Evrópukeppnin í fótbolta hefst um helgina. Strákarnir vöktu mikla athygli og skapaðist mikil stemning í Flugstöðinni þegar þeir fóru þar um. Suðurnesjamenn eiga sína fulltrúa í liðinu en með í för eru Njarðvíkingarnir Arnór Ingvi Traustason og Ingvar Jónson auk Alfreðs Finnbogasonar sem er fæddur og uppalinn í Grindavík. Arnór Ingvi er hér brosandi á miðri mynd. VF-mynd/Hörður Adolf.
einföld reiknivél á ebox.is
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
Mikilvægt að börn með einhverfu viti hvað stendur til ●●Katla Bjarnadóttir hlaut Hvatningarverðlaunin Katla Bjarnadóttir, starfsmaður hjá Skólamat í mötuneyti Holtaskóla, hlaut Hvatningarverðlaun fræ ðsluráðs Re ykjanesbæjar 2016 en verðlaunin voru afhent í vikunni. Í umsögn með verðlaununum segir að Katla hafi sýnt einstaka hugkvæmni í störfum sínum sem hafi leitt til bætts árangurs og líðan nemenda. Þá sagði í umsögninni að hún hafi að eigin frumkvæði leitað nýrra leiða til að mæta sérþörfum nemenda þegar kemur að mataræði og eru áhrif af störfum hennar sögð ná langt út fyrir veggi skólans. Katla hefur lagt sérstaka áherslu á að hjálpa nemanda með einhverfu sem ekki hefur haft mikla lyst á matnum. „Ég settist alltaf með nemandanum í frímínútum klukkan hálf tíu og við ræddum um hvað yrði í matinn þann daginn. Ég útskýrði það og bauðst til að taka grænmeti sem nemandinn borðar ekki úr pasta og súpum. Þetta hjálpaði til,“ segir Katla.
Katla hefur unnið í mötuneyti Holtaskóla í tvo ár en vann áður í 15 til 16 ár við gangavörslu og sem stuðningsfulltrúi í skólanum. Hún segir skólann virkilega góðan vinnustað. Í gegnum störf sín hefur hún öðlast dýrmæta reynslu við að starfa með börnum með einhverfu. „Þau þurfa að vita fyrirfram hvað stendur til. Það er sama hvort það er hvað verði í matinn eða hvort það sé íþróttatími seinna um daginn. Ef maður lætur þau vita og undirbýr þau, þá gengur betur.“ Alls voru tuttugu og fimm verkefni tilnefnd til Hvatningarverðlaunanna. Þau eru ætluð kennurum, kennarahópum og starfsmönnum í leikskólum, grunnskólum og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Þau eru veitt fyrir starf eða verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni. Katla segir verðlaunin hafa komið sér skemmtilega á óvart. Hún hefur lesið bréf frá foreldrinu sem sendi inn tilnefninguna og segir það hafa verið góða tilfinningu. Alexander Ragnarsson formaður Fræðsluráðs Reykjanesbæjar afhenti Kötlu blómvönd og 100 þús. kr. peningaverðlaun.
2
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. júní 2016
Hólmfríður Árnadóttir skólastjóri í Sandgerði ■■Bæjarstjórn Sandgerðis hefur staðfest samhljóða að Hólmfríður Árnadóttir verði ráðin skólastjóri Grunnskólans í Sandgerði. Hólmfríður er grunnskólakennari að mennt og með M.Ed. í menntunarfræðum. Hún hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á sviði menntamála. Hún starfar nú sem sérfræðingur hjá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og kennir í kennaradeild háskólans.
Suðurnesjamenn hamingjusamastir en reykja mest ●●Samkvæmt lýðheilsuvísi landlæknisembættisins
Fulltrúar bæjarfélaganna glaðir með samstarfið, f.v.: Ólafur Þór forseti bæjarstjórnar Sandgerðis, Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Garði, Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri í Sandgerði, Friðjón Einarsson form. bæjarráðs Reykjanesbæjar og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri.
Í samstarf um skipulagsmál á Miðnesheiði Reykjanesbær, Sandgerðisbær og Sveitarfélagið Garður undirrituðu samstarfsyfirlýsingu sveitarfélaganna nú í síðustu viku. Sveitarfélögin þrjú ná yfir samliggjandi skipulags- og/ eða athafnasvæði umhverfis Keflavíkurflugvöll, sem af mörgum er talið eitt áhugaverðasta atvinnusvæði á Íslandi með tilliti til þróunar á komandi árum. Tilgangur sveitarfélaganna með samstarfsyfirlýsingunni er að skapa ramma utan um samvinnu þeirra um
þróun og skipulag svæðisins til framtíðar, með það að markmiði að hámarka virði þess í þágu samfélagsins. Sveitarfélögin munu eiga samvinnu um framtíðarskipulag og þróun svæðis, sem sveitarfélögin koma sér saman um að afmarka. Með því verði uppbygging svæðisins markvissari, enda byggð á heildstæðum og stefnumótandi markmiðum. Á blaðamannafundi við undirritunina kom fram að í framhaldi af undirritun samstarfsyfirlýsingarinnar taki
til starfa stýrihópur, skipaður bæjarstjórum sveitarfélaganna og einum kjörnum fulltrúa frá hverju þeirra. Stýrihópurinn leiti samstarfs um verkefnið við ríkisvaldið og aðra þá aðila sem þurfa þykir. Þá skili stýrihópurinn tillögum til sveitarfélaganna fyrir lok júní 2016, um afmörkun þess landsvæðis sem verkefnið nái yfir. Í framhaldi verði unnið að gerð samnings á milli sveitarfélaganna og mögulegra samstarfsaðila um verkefnið og framgang þess.
Samkvæmt lýðheilsuvísi landlæknisembættisins eru fullorðnir á Suðurnesjum hamingjusamastir landsmanna. Lægri tíðni ölvunardrykkju fullorðinna er á Suðurnesjum. Nemendur í 10. bekk hreyfa sig að jafnaði meira en jafnaldarar þeirra á landinu. Ölvun framhaldskólanema er marktækt minni en á landinu öllu. Ofbeldi þar sem þolendur eru fullorðnir er undir landsmeðaltali á Suðurnesjum. Þá er grænmetis- og ávaxtaneysla fullorðinna yfir landsmeðaltali. Fullorðnir á Suðurnesjum virðast þó ekki duglegir að fara til vinnu öðruvísi en á bíl því að notkun á virkum ferðamátum hjá fullorðnum er marktækt minni á Suðurnesjum en annars staðar á landinu. Þrátt fyrir hamingjuna eru hlutfallslega fleiri fullorðnir sem meta andlega heilsu sína slæma á Suðurnesjum. Hlutfallslega fleiri fullorðnir reykja daglega en annars staðar á landinu. Langvinn lungnateppa og hjartasjúkdómar kvenna eru algengastir á Suðurnesjum. Færri konur á Suðurnesjum fara reglulega í leghálskrabbameinsskoðun og brjóstamyndatöku en annars staðar á landinu. Notkun
sykursýkislyfja á Suðurnesjum er marktækt meiri en á landinu öllu. Háskólamenntun er minnst á Suðurnesjum á landsvísu. Suðurnesjamenn eiga erfiðara með að ná endum saman ef miðað er við landsmeðaltal. Einelti á Suðurnesjum er langt yfir meðaltali landsins. Fæðingar hjá konum undir tvítugu eru tíðari á Suðurnesjum en á landsvísu. Íbúar á Norðurlandi og á Suðurnesjum finna mun frekar fyrir streitu en íbúar á höfuðborgarsvæðinu. Dánartíðni vegna hjarta- og æðasjúkdóma kvenna er mun meiri á Suðurnesjum. Landlæknisembættið gaf nýlega gefið út sérstaka lýðheilsuvísa sem gefa mynd af heilsu og líðan þjóðarinnar og áhrifaþáttum þar að lútandi. Birting lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum á Íslandi er liður í því að veita yfirsýn yfir stöðuna í hverju umdæmi fyrir sig í samanburði við landið í heild. Lýðheilsuvísum er ætlað að auðvelda sveitarfélögum og heilbrigðisþjónustu að greina stöðuna í sínu umdæmi, finna styrkleika og veikleika og skilja þarfir íbúanna þannig að þau geti unnið saman að því að bæta heilsu og líðan.
FRAMLEIÐSLUSTJÓRI IGS leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi í starf framleiðslustjóra í flugeldhúsi IGS ehf. STARFSSVIÐ FRAMLEIÐSLUSTJÓRA ER M.A.
HÆFNISKRÖFUR:
- Framleiðsluskipulagning - Gæðaeftirlit - Áætlunargerð - Kostnaðareftirlit - Verkstjórn - Þjálfun starfsmanna
- Menntun á matvælasviði - Reynsla af sambærilegu starfi - Góð íslensku og enskukunnátta - Tölvukunnátta - Öguð, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð - Hæfni í mannlegum samskiptum - Útsjónarsemi og heiðarleiki
Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS sjá www.igs.is fyrir 20. júní 2016
Kylfingar fá inniaðstöðu í Íþróttakademíunni í Reykjanesbæ ●●Gleðidagur fyrir kylfinga á Suðurnesjum „Þetta er gleðidagur fyrir kylfinga á Suðurnesjum,“ sagði Jóhann Páll Kristbjörnsson, formaður Golfklúbbs Suðurnesja, þegar Reykjanesbær, Golfklúbburinn og Púttklúbbur Suðurnesja undirrituðu samning um innanhússaðstöðu fyrir klúbbana í Íþróttaakademíunni á dögunum. Klúbbarnir verða þar í góðu nágrannasambandi við Fimleikadeild Keflavíkur. „Golfið er á uppleið á Suðurnesjum, fjöldi virkra klúbbfélaga er í sögulegu hámarki, alls 540 og fjölgaði um 12 prósent frá því í fyrra,“ sagði Jóhann Páll jafnframt.
Púttklúbbur Suðurnesja hafði áður aðstöðu í HF. Hafsteinn Guðnason, formaður klúbbsins, þakkaði fyrir aðstöðuna og sagðist vona að samskiptin í húsinu yrðu sem best. Klúbbmeðlimum hafi alls staðar liðið vel, bæði í Röstinni, þar sem fyrsta aðstaða klúbbsins var og í HF og hann átti von á því að eins yrði í Akademíunni. Samninginn undirrituðu Lovísa Hafsteinsdóttir, formaður íþróttaog tómstundaráðs Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Hafsteinn Guðnason, formaður Púttklúbbs Suðurnesja og Jóhann Páll Kristbjörnsson, formaður Golfklúbbs Suðurnesja.
NÝR MITSUBISHI OUTLANDER PHEV
RAFMAGN EÐA BENSÍN? ÞÚ VELUR Mitsubishi Outlander PHEV hefur fengið ótrúlega góðar viðtökur og tvíorkutæknin heldur betur sannað sig. Fjórhjóladrifinn gæðingur sem gengur bæði fyrir rafmagni og bensíni svo að þú komist allra þinna leiða með góðri samvisku. Komdu og prófaðu! Mitsubishi Outlander PHEV Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn frá:
6.590.000 kr. FYRIR HUGSANDI FÓLK HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
markhönnun ehf
-22% LAMBAHRYGGUR, FERSKUR
1.792
ÁÐUR 2.298 KR/KG
-
-21%
LAMBALÆRI, FERSKT
1.499
ÁÐUR 1.898 KR/KG
-32%
-15%
-10%
NEW YORK GRÍSAHNAKKASNEIÐAR
NETTÓ KJÚKLINGABRINGUR
KEA PIPARSÓSA - 250 G KEA HVÍTLAUKSSÓSA - 250 G
1.783
368
ÁÐUR 2.198 KR/KG
ÁÐUR 2.098 KR/KG
ÁÐUR 409 KR/STK
1.495
-20%
-10%
-20% NAUTABORGARAR M. BRAUÐI - 4 X 90 G
NAUTALUNDIR - 1,8 KG NÝ SJÁLENSKAR - FROSNAR
LAMBAFILLE M. FITU - FROSIÐ
ÁÐUR 1.098 KR/KG
ÁÐUR 3.998 KR/KG
ÁÐUR 3.998 KR/KG
878
3.598
3.198
Tilboðin gilda 9. – 12. júní 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
G
-30% GRILL LAMBALÆRI, KRYDDAÐ
1.455
ÁÐUR 2.078 KR/KG
-20%
-30% Gul, Græn, Vatns, Cantalopup & Galía
-20% MELÓNUDAGAR ALLAR TEGUNDIR
BO FJÖLKORNABRAUÐ
BO CROISSANT M. SKINKU & OSTI
AFSLÁTTUR
ÁÐUR 449 KR/STK
ÁÐUR 249 KR/STK
-30%
359
199
-15% RISTORANTE PIZZUR - 26 CM HAWAII, SPECIALE, MOZZARELLA
X-TRA SMÁUBRAUÐ, 15 STK - 750 G X-TRA RÚNSTYKKI, 15 STK - 600 G
ÁÐUR 499 KR/STK
ÁÐUR 349 KR/STK
459
298
1 KG DOWNTOWN ÍS - 500 ML 3 TEGUNDIR
GREAT TASTE JARÐARBER - 1 KG
ÁÐUR 798 KR/PK
ÁÐUR 399 KR/PK
699
349
www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss
6
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. júní 2016
RITSTJÓRNARPISTILL Eyþór Sæmundsson
SORRÝ ALFREÐ Á þessum árstíma fer vanalega að færast deyfð yfir samfélagið á Suðurnesjum líkt og á landinu öllu. Fólk er á leið í sumarfrí og þeir sem heima sitja taka því rólega við garðyrkju og pallasmíði. Nú má hins vegar búast við snemmbúinni þjóðhátíð. Þjóðin mun ræða lítið annað en fótbolta næstu vikunar þar sem íslenska karlalandsliðið er á leið á Evrópumótið í fyrsta skipti. Það er orðið langt síðan Suðurnesjamenn hafa átt nokkra fulltrúa í landsliði Íslands í fótbolta. Þeir eru þrír í hópnum að þessu sinni. Njarðvíkingar eiga tvo leikmenn í hópnum í þeim Arnóri Ingva og Ingvari Jónssyni á meðan Grindvíkingar þykjast eiga Alfreð Finnbogason. Nánar um það aftar í blaðinu. Það er eitthvað fyndið við það að eigna sér leikmenn í liðinu og tengja þá við hin og þessi félög og bæi. Hún er skemmtileg þessi þörf okkar til þess að flokka fólk alltaf hreint eftir því hvaðan það kemur. Ég hef gerst sekur um þetta margoft. Ég hef til dæmis ekki talið Alfreð Finnbogason vera Suðurnesjamann til þessa, þó svo að hann geri það sjálfur. Sorrý Alfreð. Ég er samt alveg tilbúinn að taka við Alfreð sem Suðurnesjamanni, svo lengi sem hann hljóti ekki betri kjör sem Suðurnesjamaður en ég. Þetta verða núna allt saman strákarnir okkar. Þeir verða þjóðareign og teknir í dýrlingatölu ef þeir standa sig vel í Frakklandi. Ef þeir hins vegar verða okkur til skammar eins og María Ólafs, þá fá þeir að heyra það. Suðurnesjabúar eru væntanlega spenntir fyrir fótboltanum og veit ég til þess að fjölmargir þeirra ætla að bregða sér til Frakklands. Ef vel viðrar mun ég taka röltið niður í skrúðgarð í Keflavík og horfa á leikina á risaskjá. Mikið væri nú gaman ef fleiri myndu gera slíkt hið sama næsta þriðjudag þegar Íslendingar spila gegn Portúgölum. Við á Víkurfréttum stökkvum á EM-vagninn og fjöllum um keppnina í blaði vikunnar. Þá sérstaklega um strákana „okkar,“ Suðurnesjamanna. Eyþór Sæmundsson blaðamaður Víkurfrétta
A.
N O
KARSS ÓS
Verktaki ehf.
Starfsmenn óskast
Rafvirkjar óskast Vanir alhliða viðhalds og nýlagna vinnu. Mikil og fjölbreytt vinna.
Viðgerðarmenn Við viðgerðir og eftirlit á ýmsum kerfum.
Verkamenn Vaktir Eftirlit og þrif á færibanda kerfum og rími. Umsækjendur þurfa að geta staðist bakgrunnskoðun vegna vinnu innan haftasvæða á Keflavíkurflugvelli. Upplýsingar í síma 892 3427 eða netpóst: a.oskarsson@simnet.is
SJÓNVARP V Í K U R F R É T TA
20 ára afmæli
Sjóarans síkáta fór fram með miklum glæsibrag Sjóarinn síkáti, bæjarhátíð Grindvíkinga, fagnaði 20 ára afmæli um helgina og má með sanni segja að hátíðin hafi verið glæsileg í alla staði. Bærinn skartaði sínu fegursta og veðrið lék við heimamenn og gesti, þá sérstaklega á föstudeginum. Hátíðarsvæðið við Kvikuna var þéttsetið og stemmingin á Bryggjuballinu frábær. Fyrstu tölur benda til þess að gestir hátíðarinnar í ár hafi verið um 40.000, fyrir utan bæjarbúa sjálfa, enda iðaði allur bærinn af lífi alla helgina og rúmlega það. Eins og áður sagði fagnaði Sjóarinn síkáti 20 ára afmæli í ár og var dagskráin vegleg í samræmi við það. Raunar teygði hátíðin sig alveg aftur á miðvikudag en það var nóg um að vera út um allan bæ allt fram á sunnudagskvöld. Mikil stemming myndaðist á bryggjuballinu á föstudeginum en Páll Óskar keyrði upp stuðið bæði þar og svo á risa dansleik í íþróttahúsinu á laugardagskvöldinu. Það eru engar ýkjur þegar sagt er að landslið skemmtikrafta hafi komið fram á hátíðinni í ár. „Það eru margar hendur sem koma að skipulagningu jafn stórrar hátíðar og Sjóarans síkáta og viljum við hjá Grindavíkurbæ koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg. Sjóarinn síkáti er bæjarhátíð allra Grindvíkinga og við gætum ekki gert þetta án ykkar hjálpar,“ segir á vef bæjarins um hátíðina.
NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ
WWW.VF.IS/VEFTV
SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/ eða myndabrengl. Tilboð gilda til 12.júní eða á meðan birgðir endast.
Í verslun BYKO Keflavík Laugardaginn 11. júní frá 12-15 Fjöldi sumartilboða! Boðið er upp á grillaðar pylsur,
gos og safa. Sundpokar, buff og nammi fyrir ungu kynslóðina.
Sjáumst!
-20%
-20%
SUMARLEIKFÖNG
FURA, alhefluð, 27x145mm, gagnvarin
295
kr./m.
0058324 Almennt verð: 345 kr./m. Lengdir: 4,5m og styttra.
ULTRAGLOZZ, bón 250ml
1.990
kr.
90522343 Almennt verð: 2.295 kr.
-30%
RAFHLÖÐUBORVÉL
STJÚPUR 10STK.
895
kr.
55092000 Almennt verð: 1.295 kr.
-30%
6.555
kr.
74804118 Almennt verð: 8.195 kr.
Gildir ekki af gagnvörðum viðarhúsgögnum
-20%
PALLAOLÍA, 4l. margir litir.
3.495
kr.
ÚTILEGUVÖRUR
86363041 Almennt verð: 4.995 kr.
FERÐAGASGRILL margir litir
19.995
kr.
50632096-100 Almennt verð: 24.995 kr.
-20% GARÐHÚSGÖGN
-20%
VERKFÆRASETT 125 stk.
-30% -20%
SLÁTTUORF, 300W
4.795
kr.
74830011 Almennt verð: 5.995 kr.
AFGREIÐSLUTÍMI UM HELGINA
Laugardagur 10-16, sunnudagur lokað.
-31%
19.995
kr.
70174393 Almennt verð: 28.995 kr.
SLÁTTUVÉL, 2,3kW
26.995
kr.
53323130 Almennt verð: 34.995 kr.
-22%
8
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. júní 2016
Ákvað að gera áhugamálið að frama Grindvíkingurinn Sigríður J. Valdimarsdóttir skrifar hinsegin ástarsögur á ensku undir höfundanafninu Erica Pike. Bækurnar hafa notið mikilla vinsælda og verið ofarlega á sölulista Amazon. „Það var alltaf fjarlægur draumur að geta unnið fyrir mér sem skáld eða rithöfundur, en í þá daga varð maður að velja eitthvað praktískara. Unglingar í dag hafa úr svo miklu meira að velja þegar þau velja sér framabraut og menntun,“ segir viðskiptafræðingurinn Sigríður J. Valdimarsdóttir, sem skrifað hefur hinsegin bókmenntir á ensku. Bækurnar hafa notið mikilla vinsælda og oftar en einu sinni komist ofarlega á sölulista Amazon, einum stærsta bóksöluvef heims. Í heildina hefur Sigríður selt sex þúsund eintök af bókum sínum, ýmist rafrænar útgáfur eða prentaðar. Sigríður er 38 ára og ólst upp í Grindavík. Átján ára gömul flutti hún þaðan og bjó um tíma í Reykjavík, Danmörku og í Kópavogi. Árið 2007 eignaðist hún tvíburastráka með manninum sínum. Þau skildu árið 2011 og þá flutti Sigríður aftur með synina til Grindavíkur þar sem foreldrar hennar búa. Núna í sumar ætlar fjölskyldan að flytja aftur í Kópavoginn.
Hefur samið frá unglingsárum
Sigríður hefur samið sögur og ort ljóð síðan á unglingsárum en tók sér langa pásu þar til um þrítugt. „Þegar ég byrjaði að skrifa aftur ákvað ég að gera áhugamálið að frama,“ segir Sigríður. Þá byrjaði hún að fikta við skrifin aftur og var komin með langa unglingabók þegar hún las af forvitni ástasögu um samkynhneigða menn. „Þetta heillaði mig og ég ákvað að fara þessa leið frekar en að halda áfram með hið svokallaða „mainstream young adult“ bækur.“ Fyrir fimm árum síðan var hún svo tilbúin með tvö handrit af bókum í fullri lengd og þrjár smásögur og hafði samband við Man Love Romance Press, sem var þá einn af stærstu útgefendunum í þessum geira og komst inn hjá þeim. Núna eru útgefnar bækur eftir Sigríði orðnar þrjár og smásögurnar tíu. Þessa stundina er hún að klára aðra bók og vinna að nokkrum smásögum. Það er safn af stuttsögum sem gerast á Íslandi. Það verður í fyrsta sinn sem hún skrifar um íslenskar persónur. Bókaforlagið Juno í Frakklandi ætlar svo að gefa eina bókanna út þar í landi í nóvember. Aðspurð um viðtökurnar, segir Sigríður þær hafa verið mjög góðar. „Ég gaf út mjög oft á fyrsta árinu, þannig að nafnið mitt var alltaf að poppa upp á erlendum samfélagsmiðlum. Mér tókst að búa til vörumerki með því að vera mikið til staðar og auglýsa sjálfa mig. Þannig er það í útgáfuheiminum í dag, að minnsta kosti í Bandaríkjunum, að rithöfundarnir þurfa að markaðssetja sig og sínar bækur sjálfir. Útgefendur eru ekki mikið að því, nema þeir allra stærstu. Það hjálpaði mér að ég er viðskiptafræðingur, með áherslu á markaðsfræði og stjórnun, þannig að mér fannst þetta skemmtilegt.“
Sigríður átti sér alltaf þann draum að geta unnið fyrir sér sem rithöfundur. Hún er nú búin að láta drauminn rætast og hafa bækur hennar fengið góðar móttökur.
Speglaði sjálfa sig í afneituninni
Fyrsta bókin sem Sigríður sendi frá sér heitir A Life without You og fjallar um tvo háskólastráka sem eru herbergisfélagar. Annar þeirra er hommi, en hinn er búinn að koma sér kyrfilega fyrir inni í skápnum. Bókin fjallar um afneitun, og hvort það sé þess virði að leyfa sér að vera eins og maður er. „Þetta speglaði sjálfa mig mjög mikið þar sem ég var í afneitun um mína kynhneigð. Mikið af mínum bókum fjalla um skápinn eða hræðslu mína við að koma út úr honum.“ Nú er Sigríður komin út sem bæði pankynhneigð og blætishneigð og er farin að leggja aðrar áherslur í skrifum sínum. Pankynhneigðir laðast að persónuleika annarra í stað kyns eða kynímynda. Blæti er þýðing á enska orðinu „fetish“ og er samheiti yfir hluti, fyrirbæri, eða líkamshluta sem vekja kynferðislegan losta. BDSM fellur undir þetta samheiti. Sigríður kveðst alltaf hafa verið dagdreymin og að innblásturinn að bókunum komi úr hennar eigin kolli. „Dagdraumarnir eru eins og kvikmyndir í höfðinu og ég ákvað að skrifa þetta niður. En stundum koma allt í einu upp „hvað ef ” spurningar. Hvað ef strákar á stúdentagörðum heyra í hvorum öðrum sitt hvoru megin við vegginn? Hvað ef þeir hafa aldrei hittst í persónu? Hvað ef þeir verða hrifnir af hvorum öðrum? Og hvað ef það kemur upp stór misskilningur um það hver manneskjan hinum megin við vegginn er? Það er hægt að búa til skemmtilegar sögur út frá svona pælingum,“ segir Sigríður, en þetta voru pælingar sem urðu að stuttsögunni The Walls Have Ears. Karlar tækla hlutina öðruvísi en konur Bækur Sigríðar fjalla allar um menn sem eru að finna hina sönnu ást í
fyrsta sinn. Hún segir það eflaust hljóma væmið en að það skemmtilega við þessar bækur, og aðrar sem eru skrifaðar af öðrum, er að þar er verið að skrifa um tvo karla. „Þá eru bækurnar oftast minna væmnar en hefðbundnu maður/ kona ástarsögurnar. Karlar eiga það til að tækla hlutina öðruvísi en konur, þó að þeir séu eins misjafnir og þeir eru margir, og það er skemmtilegt að skrifa það. Einnig hafa allar bækurnar hingað til haft að minnsta kosti eitt þema í kringum það að vera samkynhneigður, til dæmis að vera í skápnum, að vera útskúfaður, að vera með innri hómófóbíu, einelti vegna kynhneigðar, o g svo framvegis. En þó að þetta séu alvarleg málefni, þá eru bækurnar yfirleitt auðlesnar því ég passa upp á að hafa húmor með,“ segir Sigríður. Hún bætir við að bækurnar séu fyrst og fremst ástarsögur en innihaldi flestar erótískar senur. „Ef ég væri að skrifa ástarsögur um karla og konur þá væru þar líka erótískar senur enda finnst mér miklu skemmtilegra að lesa þannig ástarsögur.“ Sigríður skrifar undir höfundarnafninu Erica Pike og segir hún gilda ástæðu fyrir því. „Mamma og pabbi voru svo góð að gefa mér sterkt, rammíslenskt nafn sem ég gat engan veginn notað á alþjóðamarkaði. Ég varð að finna eitthvað annað.“ Stuttu áður en Sigríður byrjaði að skrifa var hún að spila tölvuleikinn World of Warcraft Online þar sem hún var í hlutverkaleik og lék persónu sem hét Eva Pike. Aðalpersónan í unglingabókinni sem hún var að skrifa áður en hún fór að skrifa ástarsögur um samkynhneigða menn heitir Eva, þannig að hún ákvað að nota Erica sem höfundanafn.
Skrifar mest á sumrin
Vinnudagarnir við ritstörfin eru ekki hefðbundnir, heldur tekur Sigríður tarnir og skrifar og skrifar og svo koma hlé á milli. Hún hefur glímt við kvíða og þunglyndi í tólf ár og verið óvinnufær vegna þess. „Ég get mjög lítið gert á veturna og er lengi að koma mér af stað á vorin. Á sumrin næ ég að skrifa ágætlega, á meðan synir mínir eru hjá pabba sínum, en svo dofnar orkan með haustinu. Það er mjög erfitt að vera svona, en ég er að læra að
SJÓNVARP V Í K U R F R É T TA
Mamma og pabbi voru svo góð að gefa mér sterkt, rammíslenskt nafn sem ég gat engan veginn notað á alþjóðamarkaði lifa með því með því að nýta orkuna þegar færi gefst. Þegar ég er byrjuð á bók, þá er ég inni í þeim heimi á meðan ég skrifa, og verð að hafa skrifblokk við rúmið því hugurinn fer á flug.“ Í sumar ætlar Sigríður að leggja lokahönd á unglingabók sem fjallar um tvo stráka sem festast með öðru fólki í verslunarmiðstöð á meðan veikt fólk breytist í uppvakninga og heimurinn eins og við þekkjum hann endar.
„Þeir verða að treysta á hvorn annan til að finna mat og fleira til að halda hópnum á lífi. Að lokum þurfa þeir svo að finna leið út. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á heimsendabókum og öðrum sjálfsbjargar myndum og þess háttar.“ Það er nóg að gera hjá Sigríði því hún er líka að skrifa bækur með tveimur öðrum rithöfundum. Ein af þeim gerist í Kanada og fjallar um „shiftera” það er menn sem geta breytt sér í dýr, en hin gerist á Íslandi og er nútímasaga.
NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ WWW.VF.IS/VEFTV
t
EM TILBOÐ TILBOÐ
Philips 55PFT5500 55" Smart LED sjónvarp með Full HD 1920 x 1080 upplausn. Pixel Plus HD. DualCore örgjörvi. 200 Hz Perfect Motion Rate. Multiroom TV. Android 5.0. Wi-Fi. Stafrænn DVB-C/T2 móttakari. 3 x USB og upptökumöguleiki. 4 x HDMI. Spotify Connect. MyRemote Apple / Android síma- og spjaldtölvu App.
119.995 VERÐ ÁÐUR 149.995
með Android
49”
49”
55”
65”
FULL HD SJÓNVARP ANDROID ULTRA HD
SMART VIERA LED 4K ULTRA HD
SMART IPS ULTRA HD
SMART IPS ULTRA HD
Philips 49PUT6401
Panasonic TX49DX603
TILBOÐ
TILBOÐ
LG 55UF680V
LG 65UH600V
TILBOÐ
TILBOÐ
139.995
169.995
179.995
289.995
VERÐ ÁÐUR 169.995
VERÐ ÁÐUR 189.995
VERÐ ÁÐUR 229.995
VERÐ ÁÐUR 329.995
-22%
15,6“ fjögurra kjarna fartölva með Intel örgjörva, stórum 1TB hörðum diski og flottum skjá.
-30%
TILBOÐ
VERÐ ÁÐUR 89.995
VERÐ ÁÐUR 6.995
Leikjalyklaborð með rauðri LED baklýsingu og íslenskum stöfum.
-10.000
4.995
Komdu fyrir 32GB af gögnum á þessum netta USB lykli með háhraða flutningsgetu í gegnum USB 3.0.
TILBOÐ
TILBOÐ
VERÐ ÁÐUR 9.995
VERÐ ÁÐUR 3.995
6.995
ASU-CERBERUSKEYBOARD
Þráðlaust lyklaborð og mús.
TILBOÐ
69.995 ACE-NXMZUED021
-29%
24“ 144Mhz tölvuleikjaskjár með 1920*1080 upplausn.
TILBOÐ
LOG-MK270
-38%
2.495
15.6" fartölva með Intel Pentium Dual core örgjörva. 4GB minni. 750GB SATA harðdiskur. Intel HD Graphics skjákort.
SDI-SDCZ73032G
-21%
TILBOÐ
49.995
54.995
VERÐ ÁÐUR 59.995
VERÐ ÁÐUR 69.995 TOS-C50B1CE
PHS-242G5DJEB
ht.is HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740
10
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. júní 2016
Það kemur alltaf logn á eftir storminum ●●Sólveig M. Jónsdóttir býr í Þórkötlustaðahverfi austan við Grindavík og sýndi á dögunum myndir þaðan á yfirlitssýningu 1. árs nema við Ljósmyndaskólann. „Ég kalla Þórkötlustaðahverfið alltaf þorpið en það er kannski nær því að vera dreifbýli enda aðeins um 15 til 20 hús austan við Grindavík,“ segir Sólveig M. Jónsdóttir, leiðsögumaður. Hún flutti í Þórkötlustaðahverfið fyrir tólf árum síðan með eiginkonu sinni, Önnu Sigríði Sigurjónsdóttur. Sólveig var að ljúka fyrsta ári sínu við Ljósmyndaskólann og á yfirlitssýningu fyrsta árs nema á dögunum sýndi hún myndir sem hún tók í Þórkötlustaðahverfi. Í daglegu tali segja Grindvíkingar að þeir séu að fara austur í hverfi en Þórkötlustaðahverfið er í um tveggja kílómetra fjarlægð frá Grindavík.
Fundu lítið sætt hús við sjóinn
Sólveig og Anna höfðu engin tengsl við hverfið eða Grindavík þegar þær fluttu þangað fyrir tólf árum síðan. Þær fundu lítið, fallegt hús við sjóinn og kveðst Sólveig vera hugfangin af svæðinu. „Það eru nokkur hús hérna, nánast í brimgarðinum. Sumir íbúanna hafa búið hér alla sína ævi, aðrir flutt úr Grindavík og svo er fólk eins og við sem er aðflutt. Öll þekkjumst við eða vitum hvert af öðru þó að það sé töluverð vegalengd á milli húsanna. Hér eru örnefni á hverri þúfu. Það eru ekki margir staðir í líkingu við Þórkötlustaðahverfi eftir á Íslandi.“ Sólveig kann vel við sig við sjóinn og vonast til að búa þar sem lengst. „Mér finnst svo æðislegt að búa hérna og
njóta útsýnisins út á hafið. Það blæs reyndar oft hérna en það kemur alltaf logn á eftir storminum.“ Í hverfinu eru nokkrir bændur með sauðfé svo þar er svolítil sveitastemmning.
Býður ferðamönnum heim í kaffi
Sólveig hefur verið leiðsögumaður víða um land í tæp tuttugu ár. Þegar hún er á ferð um Reykjanesið býður hún ferðafólki heim í kaffi og hefur það mælst vel fyrir. Það hafði lengi verið draumur Sólveigar að læra ljósmyndun. Ljósmyndaskólinn er úti á Granda í Reykjavík og keyrir Sólveig því daglega á milli í námið yfir vetrartímann. Námið tekur tvö og hálft ár. Hún kveðst vera sú elsta í bekknum en að það komi síður en svo að sök. „Námið er mjög skemmtilegt. Við höfum fengið góða innsýn í listasöguna, ljósmyndasöguna og ýmsa strauma og stefnur í ljósmyndun. Nemendur eru fáir svo kennslan hefur verið mjög persónuleg sem er gott í ljósmyndun,“ segir Sólveig. Hún hefur í náminu lagt áherslu á heimilda- og landslagsljósmyndun. Næsta sýning Sólveigar hjá Ljósmyndaskólanum verður við útskrift eftir eitt og hálft ár og er stefnan að sýna þá fleiri myndir úr Þórkötlustaðahverfi.
Það hafði lengi verið draumur Sólveigar að læra ljósmyndun. Hún stundar nú nám við Ljósmyndaskóla Íslands.
Sólveig hefur lagt áherslu á heimilda- og landslagsljósmyndun. Meðfylgjandi myndir tók hún í Þórkötlustaðahverfi.
Námið er mjög skemmtilegt. Við höfum fengið góða innsýn í listasöguna, ljósmyndasöguna og ýmsa strauma og stefnur í ljósmyndun
1y0 lsur
P
1.998 kr. kg Norðanfiskur Laxabitar Með roði, frosnir
498 kr. kg
Danpo Kjúklingur Danskur, heill, frosinn
359 kr. pk.
159
Bónus Vínarpylsur 485 g,10 stk.
Bónus Pylsubrauð 260 g, 5 stk.
kr. pk.
GOTT VERÐ Í BÓNUS
Frosinn gur lambahryg
1.998 kr. kg
198 kr. pk.
KS Lambahryggur Frosinn, hálfur (lundapartur)
98
kr. 40 g
139 Bónus Samlokuskinka, 237 g
1kg
kr. 145 g
0,5L
Maryland Kex 145 g, 4 tegundir
kr. 12 stk.
Bónus Kornbrauð 500 g
98
Pringles Snakk 40 g
259
kr. stk.
Bónus Frostpinnar 12 stk. í pakka, 2 teg.
59
kr. 250 ml
kr. 500 ml
98
998
ES Orkudrykkur 250 ml, 2 teg.
Egils Appelsín 500 ml
Gevalia Kaffibaunir 1 kg
kr. 1 kg
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 12. júní eða meðan birgðir endast
12
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. júní 2016
Í ættinni að verða forritari ●●Björn Þór Hrafnkelsson, vann til verðlauna í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna fyrir sjálfvirkan gluggaopnara fyrir ketti. ●●Hann ætlar í framtíðinni að verða forritari
Björn Þór Hrafnkelsson, nemandi í 5. bekk í Stóru-Vogaskóla, vann til tvennra verðlauna í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna sem fram fór í lok maí. Verðlaunin hlaut Björn fyrir hugmynd sína MurrinnX sem er sjálfvirkur gluggaopnari fyrir ketti. „Ég og pabbi vorum bara að reyna að finna einhverja hugmynd. Svo stakk pabbi upp á því að gera eitthvað fyrir dýr. Þá horfði ég á köttinn minn, hann Murra, og datt í hug gluggaopnari fyrir ketti. Þannig byrjaði þetta,“ segir Björn um hugmyndina sniðugu. Á Nýsköpunarkeppni grunnskólanna hlaut Björn önnur verðlaun fyrir hugmyndina í sínum aldursflokki. Þá hlaut hann einnig Guðrúnarbikarinn sem veittur var þeim hugmyndasmið sem talinn var hafa skarað fram úr fyrir hugmyndaríki, dugnað, að vera fylginn sér, kurteis og samviskusamur. Guðrúnarbikarinn er veittur í minningu Guðrúnar Þórsdóttur, sem var
einn af frumkvöðlum Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda og innleiðingu nýsköpunarmenntar í grunnskólum. Alls bárust 1.750 hugmyndir í keppnina og voru 27 hugmyndir valdar til þátttöku í úrslitakeppni. Það var því mikið afrek bara að komast í úrslitakeppnina. Björn segir það svo hafa komið sér skemmtilega á óvart að vinna til tvennra verðlauna. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti verðlaunin. „Ég var mjög sáttur við að fá bara Guðrúnarbikarinn. Svo þegar forsetinn sagði að ég hefði líka lent í öðru sæti varð ég mjög hissa,“ segir hann.
Kötturinn Murri
var heimilislaus þegar Hafrún Hrafnkelsdóttir, eldri systir Björns, fann hann fyrir fimm árum. Hún hafði falið hann inni hjá sér í þrjá daga þegar foreldrar hennar komust að því. Fyrst ætluðu þau með köttinn í Kattholt en áður en af því varð hafði hann heillað þau upp úr skónum og varð strax einn af fjölskyldunni. Þau kalla hann þó ekki köttinn sinn, því hann er mjög sjálfstæður, heldur segja þau að hann búi hjá þeim. Murri er úti að leika sér flesta daga en kíkir heim rétt til að borða og hvíla sig. Þá er gott að hann geti sjálfur opnað gluggann.
Vill að kötturinn komist sjálfur út
Gluggaopnarinn er nefndur eftir kettinum Murra sem býr á heimili fjölskyldu Björns í Vogum. Opnarinn virkar þannig að skynjari er settur á ól kattarins og við hliðina á glugganum er annar skynjari. Í staðinn fyrir lausafag er svo pumpa á glugganum. Þegar
kötturinn nálgast gluggann nemur skynjarinn það og opnar gluggann svo kötturinn komist út eða inn. Hann Murri, köttur fjölskyldunnar á, eins og svo margir aðrir kettir, stundum í vandræðum með að komast út og er opnarinn því kærkomin lausn. „Oft hoppar Murri upp í gluggakistuna og mjálmar þangað til við komum og opnum fyrir honum,“ segir Björn.
Er aðeins byrjaður að forrita
Á myndinni má sjá sýniseintak af glugga með sjálfvirkum opnara fyrir ketti og verðlaunagripina sem Björn Þór hlaut á Nýsköpunarkeppni Grunnskólanna.
Við undirbúning á hönnun á gluggaopnaranum naut Björn hjálpar frá pabba sínum. Þeir gerðu smá könnun á búnaði fyrir þessa lausn áður en hugmyndin var send inn í keppnina. Svo var hugmyndin hans Björns Þórs valin ásamt 27 öðrum hugmyndum og
FORSETAKOSNINGAR LAUGARDAGINN 25. JÚNÍ 2016 Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis frá og með 15. júní og fram að kjördegi á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar, í Vörðunni við Miðnestorg. Kosningarétt við forsetakjör eiga þeir kjósendur sem eiga kosningarétt til Alþingis, samkvæmt 1. gr. laga um framboð og kjör forseta Íslands nr. 36/1945, sbr. 1. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar.
Kosið er í Grunnskólanum í Sandgerði. Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki. Kjörstaður opnar kl. 9.00 og lokar kl. 22.00. Á kjördag mun kjörstjórn hafa aðsetur í Grunnskólanum í Sandgerði og í síma 899-6317. Kjörstjórn Sandgerðisbæjar.
hugmyndasmiðunum boðið í þriggja daga vinnusmiðju og þar bjó Bjössi til sýniseintak af glugga og plakat til útskýringar á hugmyndinni. Á næstunni ætla þeir feðgar svo að setja upp skynjara í glugga heima. „Ég er búin að segja frá því í sjónvarpinu að við ætlum að gera þetta, bæði hjá Rúv og Víkurfréttum svo við verðum að gera það,“ segir Björn. Hrafnkell Sigurðsson, pabbi Björns, er forritari og er Björn ekki í nokkrum vafa um að hann ætli að feta í fótspor hans og verða líka forritari í framtíðinni. „Þetta er eiginlega í ættinni. Pabbi minn er forritari og afi minn var það líka. Ég sé að það er skemmtilegt starf og ætla því líka að verða forritari,“ segir Björn sem er aðeins byrjaður að forrita.
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, veitti verðlaunin á Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Á myndinni er Björn með forsetanum.
Fjöldi fyrirtækja á Suðurnesjum innleiðir Vakann ●●Þörf á aukinni fagmennsku í ferðaþjónustu, segir verkefnastjóri Keilir á Ásbrú, í samstarfi við Mark- sem vel er gert og tækifæri til að aðsstofu Reykjaness, býður fyrir- bæta það sem betur má fara. Vakinn tækjum í ferðaþjónustu að innleiða er íslensk vottun en byggð á nýsjáVakann, gæða- og umhverfiskerfi lensku gæðakerfi fyrir ferðaþjónustu fyrir íslenska ferðaþjónustu. Sigur- sem kallast Qualmark. Mikil vinna hefur verið lögð í að staðbjörg Jónsdóttir hefur færa kerfið og laga að ísverið ráðin verkefnastjóri lenskum aðstæðum. Eftir hjá Keili og mun aðstoða að fyrirtæki hafa fengið fyrirtæki við innleiðingu vottun Vakans er gerð útVakans. Sigurbjörg er tekt á starfseminni einu Vakanum vel kunn því sinni á ári eftir það. að hún sá um innleiðingu hans sumarið 2014 hjá Sigurbjörg segir mikla Bílaleigunni Geysi en auglýsingu fylgja því bílaleigan var fyrsta fyrirfyrir fyrirtæki að innleiða tækið á Suðurnesjum sem Vakann. „Á vefnum Viinnleiddi gæðakerfið. sit Iceland er listi yfir þau Stuttu síðar hlaut Bláa fyrirtæki sem hafa innleitt lónið Vakann og nú eru Sigurbjörg Jónsdóttir, mörg fyrirtæki á Reykja- verkefnastjóri hjá Keili. Vakann og líka í tímariti fyrir farþega í Icelandair nesi í því ferli að uppvélum og í flugstöðinni. fylla kröfur Vakans. „Það Ferðamenn horfa til þess er þörf á aukinni fagað þau fyrirtæki sem þeir mennsku með auknum fjölda ferðamanna hér á landi.“ segir skipta við séu með gæðavottun.“ Að sögn Sigurbjargar er stefnt er að því Sigurbjörg. að Reykjanesið verði leiðandi sviði Þau fyrirtæki sem taka þátt njóta Vakans á landsvísu. Fyrirtæki sem liðsinnis Sigurbjargar við að taka vilja innleiða Vakann geta haft samút reksturinn á grundvelli ítarlegra band við Sigurbjörgu með tölvupósti gæðaviðmiða, fá staðfestingu á því á netfangið sigurbjorgjons@keilir.net.
AAAAAhhh
EINSTAKLEGA KÆLANDI SÓLARVÖRN
NJÓTTU FYRSTU NIVEA SÓLARVARNARINNAR SEM KÆLIR NIVEA.com
14
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. júní 2016
Mikilvægt að vera góð fyrirmynd fyrir ungar konur ●●Oddný Harðardóttir var fyrsti ráðherra Suðurnesjamanna og nú fyrsti ● formaður stjórnmálaflokks l Fær ekki mikið sumarfrí Oddný Harðardóttir var á dögunum kjörinn formaður Samfylkingarinnar. Nýtt hlutverk leggst vel í Garðbúann sem áður hafði gengt hlutverki fjármálaráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Þrátt fyrir að flokkurinn sé með nánast sögulega lítið fylgi um þessar mundir þá var Oddný hvergi bangin við að taka að sér að leiða flokkinn. „Ég gekk lengi með þessa hugmynd í maganum en ég fékk mikla hvatningu. Ef ég hefði ekki fengið hana þá hefði ég ekki farið af stað. Ég nýt mín ágætlega í mótlæti og mér finnst gaman að finna leiðir út úr vanda.“ Oddný mun vera fyrsti Suðurnesjamaðurinn sem gegnir formennsku stjórnmálaflokks á Íslandi. Hún var jafnframt fyrsti ráðherrann sem Suðurnesjamenn eignuðust. „Ég er sjálf ekkert að spá í þessa hluti. Hins
vegar veit ég að sem gamall kennari og skólastjórnandi, að fyrirmyndir skipta miklu máli. Mér finnst mikilvægt að vera góð fyrirmynd fyrir ungar konur.“ Oddný segir að sú reynsla sem hún hafi öðlast sem ráðherra verði ekki frá henni tekin. Á þeim tíma hafi hún lært óskaplega margt. Sú reynsla hafi nýst vel í pólitíkinni og muni gera það áfram. Það eru annasamir tímar framundan hjá Oddnýju og félögum hennar í Samfylkingunni þannig að sumarfríið verður af skornum skammti. Við fengum þó formanninn nýkrýnda til þess að segja okkur aðeins frá áformum sínum í sumar. Hvernig verður sumarfríið hjá þér í ár? „Ég mun ekki fá mikið sumarfrí þar sem kosningar eru í haust og undir-
búningur fer fram í sumar. Ég geri þó ráð fyrir að nýta sumarbústaðinn í Kjarnaskógi sem við leigðum okkur í eina viku.“ Eftirminnilegt sumarfríi hjá þér? Ég hef verið svo lánsöm að öll sumarfrí með fjölskyldunni hafa verið skemmtileg og eftirminnileg. En sumarið 2008 fórum við Eiríkur í hjólaferð með gömlum skólafélögum frá borginni Bolzano á Ítalíu og við enduðum í Feneyjum. Það var hreint út sagt dásamlegt að hjóla í því undurfallega umhverfi í góðum félagsskap.“ Hvert væri draumasumarfríið? „Mig dreymir um að fara með allri fjölskyldunni, Eiríki, stelpunum, tengdasonum og barnabörnum í hjólaferð um Móseldalinn. Vonandi gerum við það á næstu árum.“
Oddnýju dreymir um að fara með fjölskyldunni sinni í hjólreiðaferð um Mósedalinn í Þýskalandi. Hún sér fram á annasamt sumar enda er búist við kosningum í haust.
LESANDI VIKUNNAR
Englar alheimsins er áhrifamest
Sigmundur Már Herbertsson er starfsmaður í Björk-sérdeild og körfuboltadómari. Hann nýtir tímann vel þegar hann ferðast og les mikið. Hvaða bók ertu að lesa núna?
Það er bókin Bubble eftir Anders De La Motte. Þetta er lokabókin í þríleik. Hinar heita Game og Buzz. Ég mæli eindregið með þessum bókum. Einnig er bókin Basketball for Everyone alltaf á náttborðinu.
Hver er þín eftirlætis bók?
Margar góðar en get ekki nefnt einhverja eina sérstaklega.
Hvernig bækur lestu helst?
Hvaða bók ættu allir að lesa?
Það er bókin Englar alheimsins. Hún vekur mann til umhugsunar um andleg veikindi og þau áhrif sem þau hafa á einstaklinga og þeirra nánustu.
Hvar finnst þér best að lesa?
Eiginlega hvar sem er en ég les mikið í flugvélum þegar ég ferðast vegna dómgæslunnar. Stundum þarf ég að bíða lengi á flugvöllum og þá er gott að hafa bók að glugga í.
Hver er þinn uppáhalds rithöfundur?
Les helst spennu- og glæpasögur.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig?
Englar alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson.
Erfitt að gera upp á milli svo ég nefni þá Jussi Adler-Olsen, Lee Child og Stefán Mána.
FORSETAKOSNINGAR LAUGARDAGINN 25. JÚNÍ 2016
Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar, frá miðvikudeginum 15. júní fram að kjördegi. Kosningarétt við forsetakjör eiga þeir kjósendur sem eiga kosningarétt til Alþingis, samkvæmt 1. gr. laga um framboð og kjör forseta Íslands nr. 36/1945, sbr. 1. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar. Kosið er í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2. Kjósendur skulu framvísa persónuskilríki á kjörstað. Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs fer fram á skrifstofu sýslumannsins, að Víkurbraut 25, neðri hæð. Aðeins er opið virka daga frá kl. 8:30-13:00. Dagana 20.-24. júní frá kl. 8:30 til 18:00. Kjörstjórn Grindavíkurbæjar
Frá opnun sumarsýningar Listasafns Reykjanesbæjar í Duus safnahúsum um nýliðna helgi. Á sýningunni eru verk eftir 21 listamann, aðallega málverk, en einnig er þar að finna ljósmyndaverk og skúlptúr. VF-mynd: Hilmar Bragi
Sumarsýning Listasafns Reykjanesbæjar opnuð ●●MANNFÉLAGIÐ í Duus safnahúsum Sumarsýning Listasafns Reykjanesbæjar, sem að þessu sinni ber heitið Mannfélagið, var opnuð síðasta laugardag. Á sýningunni eru verk eftir 21 listamann, aðallega málverk, en einnig er þar að finna ljósmyndaverk og skúlptúr. Elstur þessara listamanna er Ásgrímur Jónsson (1876-1958), en yngstur Aron Reyr (f. 1974). Listamennirnir eiga það sammerkt að vinna með margháttaðar birtingarmyndir mannlegra samskipta, ýmist beint og umbúðalaust eða með táknrænum hætti. Sjónarhorn þeirra getur verið einkalegt, faglegt eða félagslegt. Líta má á þessa sýningu sem eins konar framhald á hinni vinsælu sýningu Kvennaveldið, sem sett var upp í safninu í byrjun árs. Í báðum tilfellum er grennslast fyrir um hlutlæga myndlist á Íslandi, og hvað það er sem höfundar slíkra mynda vilja segja okkur um hugmyndir sínar og viðhorf. Á þessari sýningu fjalla 10 konur og 11 karlmenn um samskiptamáta manneskjunnar og þær aðstæður sem kveikja mannleg samskipti. Flestir listamannanna virðast þeirrar skoðunar að Íslendingar myndi náin tengsl sín á meðal fyrst og fremst í gegnum
sameiginlega iðju, vinnu eða tómstundir, fremur en brýna tilfinningalega þörf. En sýning af þessu tagi er ekki félagsfræði; fyrst og fremst vekur hún okkur til umhugsunar um tungumál og sýnileika tilfinninganna. Flestar myndanna á sýningunni eru fengnar frá tveimur helstu söfnum landsins, auk þess sem listamennirnir sjálfir hafa lánað nokkrar myndir sem ekki hafa fyrr komið fyrir almennings sjónir. Á sumarsýningunni eru verk eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur, Aron Reyr, Ásgeir Bjarnþórsson, Ásgrím Jónsson, Baltasar, Barböru Árnason, Birgi Snæbjörn Birgisson, Finn Jónsson, Gunnar Karlsson, Gunnlaug Scheving, Helga Þorgils Friðjónsson, Hlaðgerði írisi, Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur, Karen Agnete Þórarinsson, Karólínu Lárusdóttur, Söru og Svanhildi Vilbergsdætur, Sigríði Melrós Ólafsdóttur, Sigurð Guðmundsson, Stefán Boulter, Tryggva Magnússon og Þórdísi Aðalsteinsdóttur. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson. Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duus Safnahúsum og þar er opið alla daga frá klukkan 12:00 til 17:00.
BORGUNARBIKAR KVENNA 16 LIÐA ÚRSLIT
T T Í F R INN! L Á VÖL
KEFLAVÍK – BREIÐABLIK
HLÖ K TIL A KUM Ð SJ Á YKK U VELL R Á INUM !
LAUGARDAGINN 11. JÚNÍ, NETTÓVÖLLURINN, KL. 14:00 PYLSURNAR VERÐAR KLÁRAR Í SJOPPUNNI KL. 13:30 OG Á MEÐAN LEIK STENDUR
16
VÍKURFRÉTTIR
FORSETAKOSNINGAR LAUGARDAGINN 25. JÚNÍ 2016
Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis , frá miðvikudeginum 15. júní fram að kjördegi á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Garðs, Sunnubraut 4. Kosningarétt við forsetakjör eiga þeir kjósendur sem eiga kosningarétt til Alþingis, samkvæmt 1. gr. laga um framboð og kjör forseta Íslands nr. 36/1945, sbr. 1. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Garðs.
Kosið er í Gerðaskóla. Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstaður opnar kl. 10:00 og lokar kl. 22:00.
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Garðs
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001
fimmtudagur 9. júní 2016
Stjórn Vinafélags Baldurs KE 97, Kristján, Borgar, Guðmundur, Guðný og Kristinn.
Vinafélag um BALDUR KE 97 stofnað Vinafélag BALDURS KE 97 hefur verið stofnað og er fyrsti formaður þess Borgar Ólafsson. Tilgangur félagsins er að vera vettvangur áhugafólks fyrir varðveislu skipsins, tryggja viðhald þess sem sýningargrips á Byggðasafni Reykjanesbæjar sem og að standa vörð um sögu þess og útgerðar á Suðurnesjum. Báturinn sem á stóran sess í sjávarútvegssögu Reykjanesbæjar var afhentur Byggðasafni Reykjanesbæjar til eignar í lok sjómannamessu í fyrra af þáverandi eiganda, Ólafi Björnssyni, fyrrverandi útgerðarmanni en Ólafur lést tveimur mánuðum síðar. Ólafur vildi að báturinn gegndi áfram hlutverki sínu í landi og fannst kom-
inn tími til að gefa Byggðasafninu hann en báturinn hefur staðið í nausti í Grófinni rétt við smábátahöfnina í Keflavík síðan árið 2003. Meðal verkefna nýs vinafélags bátsins er að styðja Byggðasafn Reykjanesbæjar með viðhaldi og varðveislu Baldurs KE 97 sem safngrips við bátahöfnina í Keflavík og við Duus-hús. Með Borgari í stjórn, en hann er eitt af börnum Ólafs heitins Björnssonar, voru kjörin þau Guðmundur Garðarsson sem varaformaður, Kristján Gunnarsson sem gjaldkeri og meðstjórnendur eru þau Guðný Kristjánsdóttir og Kristinn Þormar.
Klæðast breyttum einkennisfatnaði ■■Sjúkraflutningamenn hjá Brunavörnum Suðurnesja eru byrjaðir að nota nýjan einkennisfatnað í sjúkraflutningum. Í staðinn fyrir gula og rauða gallann sem hefur verið í notkun í 15 ár þá eru þeir komnir í neongulan og grænan jakka ásamt bláum buxum með tvöföldu endurskini. Vetrarfatnaðurinn er neongul og græn kuldaúlpa ásamt grænum buxum. Þessi nýi fatnaður er eftir nýjum stöðlum og stenst allar öryggiskröfur samkvæmt þeim.
TIL FUNDAR VIÐ FÓLKIÐ
Miðvikudaginn, 15 júní, kl. 20.00 í Hótel Park Inn by Radisson, Hafnargötu 57, Keflavík.
facebook.com/davidsemforseta instagram.com/david.oddsson xdavid.is
fimmtudagur 9. júní 2016
17
VÍKURFRÉTTIR
Icelandair byggir nýtt flugskýli á Keflavíkurflugvelli
LAUS STÖRF
●●Skapar á annað hundrað störf HEIÐARSKÓLI FRÆÐSLUSVIÐ LEIKSKÓLINN HEIÐARSEL VELFERÐARSVIÐ
Horft yfir mannvirki á Keflavíkurflugvelli, í forgrunni hefur nýbyggingunni verið skeytt inn við hlið núverandi flugskýlis með tölvutækni.
Skóflustungan að nýju flugskýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli var tekin í vikunni. Um er að ræða viðbyggingu við hlið núverandi flugskýlis, sem byggt var árið 1992. Áætlanir gera ráð fyrir að hægt verði að taka skýlið í notkun síðla árs 2017. Það mun skapa á annað hundrað störf og hýsa meðal annars lager, verkstæði, skrifstofur og mötuneyti. Byggingin verður um 27 metra hátt stálgrindarhús. Grunnflötur byggingarinnar er um 10.500 fermetrar og heildarflatarmál hennar um 13.600 fermetrar. Á suðurhlið skýlisins, sem snýr að nýju steyptu flughlaði, verður flugvélahurð sem samanstendur af 8 flekum á brautum. Hurðin er rúmlega 18 metra há og opnast mest um 65 metra. Vöxtur Icelandair hefur gert það að verkum að það rými sem félagið hefur til viðhalds á Keflavíkurflugvelli annar ekki þörf félagsins fyrir viðhaldsskoðanir og breytingar á flugvélum og hefur félagið þurft að senda vélar erlendis í auknum mæli í slík verkefni. Veturinn 2015 til 2016 voru til að mynda 14 stór viðhaldsverkefni send erlendis og keypt viðhaldsvinna sem nemur um 150 þúsund vinnustundum
Deildarstjóri eldra stigs Sálfræðingur Leikskólakennarar Störf með fötluðum
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
VIÐBURÐIR
Fyrstu skóflustunguna tóku Ragnar Karlsson og Adólf Svavarsson sem fulltrúar elstu og yngstu kynslóðar starfandi flugvirkja hjá Icelandair. Þeir nutu aðstoðar Birkis Hólm Guðnasonar, framkvæmdastjóra Icelandair og yfirmanns tækniþjónustu félagsins, Jens Þórðarsonar.
eða 75 ársverkum. Með byggingu skýlisins markar Icelandair þá stefnu að sinna sem mestu af viðhaldi flugflota síns á Íslandi. Í nýju byggingunni verður unnt að koma fyrir tveimur flugvélum af gerðinni Boeing 757, einni Boeing 757 og einni Boeing 767 hlið við hlið ásamt stærri flugvélum. Einnig mun
verða þar rými fyrir þrjár 737MAX vélar á sama tíma. Ætlunin er að nota viðbótina fyrst og fremst til þess að sinna stærri viðhaldsverkefnum ásamt ýmsum breytingum og uppfærslum á flugvélum. Þá losnar rými í núverandi flugskýli til þess að sinna léttara viðhaldi og tilfallandi viðgerðum og eftirliti.
BÓKMENNTAGANGA Boðið verður upp á bókmenntagöngu frá Bókasafni Reykjanesbæjar í kvöld kl. 19:30 í tilefni Geopark viku. Rannveig og Ragnhildur ganga um söguslóðir bókarinnar „Fiskarnir hafa enga fætur“ eftir Jón Kalman Stefánsson. SUMARLESTUR Sumarlestur Bókasafns Reykjanesbæjar er byrjaður. Ertu búin(n) að skrá þig og fá bókaskrá? Það verður lestrarbingó í allt sumar. SUMAR Í REYKJANESBÆ Veist þú hvaða námskeið standa börnum til boða í sumar? Kíktu á vefritið Sumar í Reykjanesbæjar á heimasíðu vefjar Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is.
Hárgreiðslustofa í anda
NÍUNDA ÁRATUGARINS
Nafnið Hárátta sameinar 80´s þemað sem er á stofunni og áráttu Evu fyrir hári.
seinna í smá tíma á „80’s er bara svo stofunni Hársaga. ferskt, fólk verður að Lengst af hefur Eva fara að tékka sig til!“ starfað á Barbarella segir hárgreiðsluí Reykjavík. „Þegar meistarinn Eva ég var búin að vinna Björk Sigfúsdóttir hj á A r t hú s i nu í sem í síðustu viku smá tíma ákvað ég opnaði hárgreiðsluað taka mig til og s t of u n a Há r áttu fara í ævintýraferð við Haf nargötu til Reykjavíkur og 54 í Reykjanesbæ. leigði mér herbergi Frænka Evu, Sunna og treysti á að fá Björgvinsdóttir, á vinnu. Þá bara gekk heiðurinn að nafnég inn á Barbarella inu sem sameinar sem var að opna þá eighties-þemað á og fékk vinnu þar. hárgreiðslustofunni Þar eru miklir fagog áráttu Evu fyrir Eva hannaði allt útlit hárgreiðslustofunnar sjálf. Það er í anda níunda ára- menn sem veittu hári. mér mikinn innHárg reiðslustofa tugarins en sá stíll er í miklu uppáhaldi hjá Evu. bl ástu r. Ég fék k Evu er öll innréttuð hvert smáatriði á stofunni.“ Peningamjög góða reynslu í and a e i g ht i e s tímabilsins. Í æsku skoðaði hún fjöl- kassann fékk Eva til að mynda hjá tví- þar og líka innsýn í hvernig það er að skyldualbúmin frá níunda áratugnum burasystur mömmu sinnar, Margréti reka hárgreiðslustofu.“ í gríð og erg og fylgdist grannt með Sumarliðadóttur. Á stofunni er gamall Eva ætlar að bjóða upp á persónuklæðaburði systur sinnar sem er fædd sími sem pabbi Evu fann á vinnu- lega þjónustu og gefa sér góðan tíma árið 1981. „Mér finnst svo skemmti- staðnum sínum. „Allir hlutirnir hérna fyrir hvern og einn viðskiptavin. „Fólk legt hvað þetta tímabil var hallærislega hafa komið til mín af tilviljun og sumt er mismunandi og með mismunandi töff,“ segir Eva sem hannaði allt útlit átti ég sjálf fyrir. Ég er listræn og hafði þarfir. Ég bóka því ekki of þétt því mjög gaman af því að fá útrás með því mig langar frekar að gefa mér góðan hárgreiðslustofunnar sjálf. tíma og veita fólki ráðgjöf um hárið „Adam bróðir minn var verkefna- að innrétta stofuna.“ stjóri í byrjun og reddaði mér topp Hár er aðaláhugamál Evu og því var sitt.” Eva býður upp á ammoníaksfría iðnaðarmönnum sem unnu verkið, það stór stund fyrir hana að opna liti og til viðbótar við klippingar og undir minni leiðsögn að sjálfsögðu. sínu eigin stofu. Hún útskrifaðist litanir sérhæfir hún sig í permanenti Við reyndum að nýta það sem var til sem hárgreiðslusveinn árið 2013 og og býður upp á það í öllum stærðum og láta okkur detta í hug ódýrar og sem meistari árið 2015. Áður vann og gerðum, enda er það mjög í anda góðar lausnir. Það var mikið dútl við hún hjá Arthúsinu í Reykjanesbæ og eighies-tímabilsins.
18
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. júní 2016
Aðkoma ríkisins að Helguvík verði sambærileg og á öðrum iðnaðarsvæðum á landinu Hafnaryfirvöld Reykjaneshafnar áttu fund með þingmönnum og ráðherrum úr Suðurkjördæmi í síðustu viku þar sem starfsemi hafnarinnar og framtíðarhorfur voru kynntar fyrir þingmönnum. Fyrir liggur að ráðast þarf í frekari hafnarbætur í Helguvík og lengja viðlegukanta í höfninni til að hún ráði við að þjónusta m.a. þau kísilver sem eru að rísa í Helguvík. Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, sagði í samtali við Víkurfréttir, að lengja þurfi viðlegukanta um 200 metra og að það þurfi að gerast á næstu 2 til 3 árum. Um sé að ræða framkvæmd sem kostar rúman milljarð króna. Víkurfréttir leituðu viðbragða þingmanna Suðurkjördæmis og sendu skriflegar spurningar til þeirra. Svör bárust frá öllum þingmönnum kjördæmisins og þar af sameinuðust sex þingmenn um svör til blaðsins.
Uppbygging í Helguvík mjög spennandi
Áformaður fundur með stjórnvöldum og bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ
„Mér finnst sú uppbygging í Helguvík sem kynnt var fyrir okkur þingmönnum í Stapanum í síðustu viku mjög spennandi og tel að ríkið eigi að koma að fjármögnun á innviðum svo sem hafnarframkvæmdum og annarri innviðauppbyggingu, rétt eins og annars staðar þar sem sambærileg iðnaðaðaruppbygging hefur átt sér stað eins og Húsavík vegna Bakka svo eitthvað sé nefnt,“ sagði Páll Jóhann Pálsson þingmaður Framsóknarflokks í svari til Víkurfrétta.
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra og þingmennirnir Silja Dögg Gunnarsdóttir Framsóknarflokki, Unnur Brá Konráðsdóttir Sjálfstæðisflokki, Haraldur Einarsson Framsóknarflokki og Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokki sendu sameiginlega svör við eftirfarandi spurningum: Hver er afstaða þín til þeirra uppbyggingar sem nú á sér stað í Helguvík? „Við erum hlynnt þeirri uppbyggingu sem nú á sér stað í Helguvík sem unnið hefur verið að af hálfu stjórnvalda og Reykjanesbæjar um margra ára skeið sem og framtíðaráformum um frekari uppbyggingu á iðnaðarsvæðinu þar. Þessi verkefni munu hafa jákvæð áhrif á Suðurnesin öll og mikilvæg efnahagsleg áhrif fyrir þjóðarbúið sömuleiðis.“ Það hefur lengi verið talað um að ríkið komi að framkvæmdum við höfnina í Helguvík. Þar liggur fyrir að ráðast þarf í lengingu hafnargarða og aðra uppbyggingu innviða meðal annars vegna þeirra kísilvera sem nú rísa og eiga eftir að rísa á næstu 2 til 3 árum. Hver er afstaða þín til aðkomu ríkisins að hafnarframkvæmdum í Helguvík?
„Undanfarin ár hefur verið unnið að því af hálfu ríkisstjórnarinnar að efla atvinnuuppbyggingu á Reykjanesi og nokkrir fjárfestingasamningar verið gerðir þar að lútandi, meðal annars við United Silicon hf. og Thorsil ehf. í Helguvík. United Silicon er nú á lokametrum við byggingu 1. áfanga kísilvers – en ekki þarf að stækka hafnaraðstöðuna í Helguvík til að þjónusta þá starfsemi. Thorsil áformar að hefja byggingu 1. áfanga kísilversins fljótlega og gangi þau áform eftir verður nauðsynlegt að stækka höfnina samhliða. Við styðjum þau áform og teljum eðlilegt að aðkoma ríkisins verði sambærileg og á öðrum iðnaðarsvæðum á landinu, meðal annars á Bakka og Reyðarfirði. Undirbúningur að slíku frumvarpi á vegum iðnaðarráðherra var vel á veg kominn þegar bæjaryfirvöld Reykjanesbæjar ákváðu að hverfa frá þeirri leið og sækja fjárframlög í gegnum hafnaráætlunarhluta Samgönguáætlunar. Nú er unnið að Samgönguáætlun í þinginu og mikilvægt að tekið verði á málinu þar. Þá er ríkisstjórnin upplýst og vel meðvituð um stöðu mála. Á næstunni er áformaður fundur með stjórnvöldum og bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ þar sem farið verður yfir stöðu málsins og næstu skref í því rædd.“
Páll Jóhann Pálsson
Nauðsynlegt að ríkið komið að framkvæmdum „Mér líst ekkert á það að í tæplega tveggja kílómetra fjarlægð frá íbúabyggð, leikskóla og grunnskóla rísi tvö heimsins stærstu kísilver og 360 þúsunda tonna álver. En góðu fréttirnar eru þær að ekki eru miklar líkur á því að það gerist. Þó er ljóst að annað kísilverið er að rísa og því er mikilvægt að innviðir hafnarinnar geti þjónustað iðnaðarsvæðið,“ segir Oddný G. Harðardóttir alþingismaður Samfylkingar í svari við spurningu um afstöðu til uppbyggingar sem er að eiga sér stað í Helguvík. Hver er afstaða þín til aðkomu ríkisins að hafnarframkvæmdum í Helguvík? „Það er nauðsynlegt að ríkið komið að framkvæmdunum og ég hef flutt um það tillögur á Alþingi með stuðningi þeirra flokka sem nú eru þar í minnihluta. Í stöðunni eins og hún er núna þarf hins vegar að skýra afstöðu kröfuhafa Reykjanesbæjar og að ríkisstyrkurinn gangi til uppbyggingar en ekki upp í skuld. Þegar að búið er að lyfta öllum fyrirvörum af stórum verkefnum er mjög algengt að ríkið komi að innviðauppbyggingu og það er réttmæt krafa að það gerist líka hér á Suðurnesjum,“ segir Oddný.
Oddný G. Harðardóttir
Verðmætasköpun í Helguvík Frekar mótfallinn þessari samfélaginu til góðs gegndarlausu stóriðjustefnu um uppbygginguna í Helguvík en „Eftir langan aðdraganda og ekkert orðið úr efndum. Brýnustu mikinn undirbúning er sú uppverkefnin sem þarf að ganga í á bygging komin í gang sem bæjarnæstu tveimur árum eru stofn- og fulltrúar og bæjarstjórn Reykjatengivegir vegna Stakksbrautar, nesbæjar hefur unnið að síðustu, Berghólabrautar og Hólmbergsað minnsta kosti 10 til 15 ár og brautar en kostnaðurinn er áætlíbúar borið miklar væntingar til. aður 700 milljónir króna. Vegna Lagt hefur verið í mikinn kostnað hafnarframkvæmda við Hafnarvegna uppbyggingar hafnarinnar bakka þarf samtals um 480 milljog skipulags iðnaðarsvæðisins í ónir króna og þarf að hefja hluta Helguvík og nú hyllir undir að þeirrar uppbyggingar mjög fljótsá mikli kostnaður skili sér. Ekki lega. Verðmætasköpunin sem aðeins í bæjarkassann heldur í byggir á innviðauppbyggingu í hundruð vel launaðra starfa sem Ásmundur Friðriksson Helguvík skiptir milljarða tugum verða til í bæjarfélaginu og auka strax á næsta ári og hundruðum velmegun íbúanna. Ég gleðst yfir þegar allri uppbyggingu verður því að sú mikla verðmætasköpun lokið. Stærsti hlutinn af þeirri sem er farin í gang í Helguvík verði samfélaginu til góðs og því mikil lyfti- verðmætasköpun mun lenda í vasa ríkissjóðs og stöng,“ segir Ásmundur Friðriksson Sjálf- því eru skyldur hans miklar við að koma þessum stæðisflokki þegar hann er spurður um af- verkefnum í höfn svo Helguvík og íbúar á Suðurnesjum sitji við sama borð og aðrir landsmenn stöðu til uppbyggingar í Helguvík. og sveitarfélög þegar kemur að innviðauppbyggingu stóriðju. Látum af því að kenna hvort öðru Hver er afstaða þín til aðkomu ríkisins um og látum verkin og loforðin að tala. Þess að hafnarframkvæmdum í Helguvík? „Stuðningur ríkisins við uppbygginguna þarf vegna hef ég undirbúið breytingatillögu við Samað liggja fyrir áður en framkvæmdir hefjast og gönguáætlun 2015-2018 þar sem tekið er á þeim nú eru síðustu möguleikar að standa við þau framkvæmdum sem áður eru nefndar í svari loforð sem tvær síðustu ríkisstjórnir hafa gefið mínu,“ segir Ásmundur.
Hver er afstaða þín til aðkomu „Mín afstaða til hennar er óbreytt ríkisins að hafnarframkvæmdum en ég hef frá upphafi verið frekar í Helguvík? mótfallinn þessari gegndarlausu „Eins og kom fram í svari mínu stóriðjustefnu sem rekin hefur hér að framan að ef rétt hefði hefði verið hér á landi alltof lengi. Það er verið staðið að málum þá hefði mín skoðun að þetta Helguvíkuraðkoma ríkisins verið eðlileg. Við dæmi sé algert stjórnsýsluklúður höfum séð hvernig þetta hefur frá upphafi til enda og afleiðingar virkað í uppbyggingu samgönguþess sjáum við meðal annars í mannvirkja á landinu á undanþeirri ömurlegu stöðu sem Reykjaförnum árum. Nægir þar að nefna nesbær og íbúar hans eru staddir í Bakka við Húsavík og svo þau nú um stundir. Það hefði hugsanjarðgöng sem farið hefur verið í að lega verið hægt að sætta sig við bora hér og þar um landið. þessa uppbyggingu á sínum tíma Páll Valur Björnsson Það er ljóst að það vantar 1200 ef allir verkferlar hefðu verið réttir, milljónir í þetta verkefni til þess tryggt fjármagn, tryggð nægjanleg að það gangi upp og ef skoðuð raforka og eðlileg aðkoma ríkisins að þessu verkefni. Og síðast en ekki síst þá hefði er Samgönguáætlun og Fjármálaáætlun ríkisátt að spyrja íbúa svæðisins um það hvort fara tjórnarinnar til næstu 5 ára þá er ekki gert ráð ætti í þennan leiðangur,“ segir Páll Valur Björns- fyrir þessu fjármagni þar. Það hefur líka komið son, alþingismaður Bjartrar framtíðar þegar fram að ríkið muni ekki setja fjármagn í þetta hann er spurður um afstöðu til uppbyggingar í fyrr en samningar hafa náðst við kröfuhafa Reykjanesbæjar og því er það mín ósk og eflaust Helguvík. allra annara að það gerist nú á næstunni,“ segir Páll Valur.
fimmtudagur 9. júní 2016
19
VÍKURFRÉTTIR
Norskar þotur komnar ●●Norðmenn sjá um loftrýmisgæslu við Ísland í júní
Opinn dagur í Kirkjugörðum Keflavíkur Þriðjudaginn 14. júní kl. 16:00 - 18:00. Kirkjugarðurinn við Aðalgötu og Hólmsbergsgarður. Gott tækifæri fyrir aðstandendur að snyrta leiði eftir veturinn og ræða við starfsfólk garðana.
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hófst að nýju í síðustu viku en þá kom flugsveit norska flughersins til landsins. Alls munu um 70 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem í Þýska-
landi. Flugsveitin kemur með fjórar F-16 orrustuþotur til landsins. Þær munu taka á loft frá Keflavíkurflugvelli tvisvar á dag virka daga en ekkert verður flogið um helgar. Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í
samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki fyrir lok júní. Það er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Boðið upp á kaffi og kleinur. Kirkjugarðanefnd.
Óska eftir lengri fresti ●●Viðræður við kröfuhafa standa enn yfir Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í vikunni að óska eftir frekari fresti til að taka afstöðu til þeirrar tillögu Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga að leggja til við innanríkisráðherra að skipa bænum fjárhaldsstjórn. Fulltrúar meirihluta í bæjarstjórn lögðu á fundinum fram bókun þess efnis að fá lengri frest þar sem viðræður við kröfuhafa standi enn yfir. Í tillögunni er ekki tekið fram hversu
langan frest bæjarstjórn óskar eftir að fá, heldur er það látið í hendur Eftirlitsnefnarinnar að ákveða það. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í minnihluta bæjarstjórnar lögðu fram aðra bókun sem líka felur í sér beiðni um frest en einnig að mikilvægt sé fyrir bæjarfélagið að vinna nýja aðlögunaráætlun þar sem sú síðasta sé frá árinu 2013 og byggð á öðrum forsendum er nú eru. Þá
vísuðu Sjálfstæðismenn til þess að í bréfi frá Eftirlitsnefndinni þar sem sveitarfélaginu er boðið að gera athugasemdir við þá tillögu að leggja til við innanríkisráðherra að skipa fjárhaldsstjórn sé vísað til þess að raufhæf aðlögunaráætlun hafi ekki verið lögð fram. Meirihlutinn hefur hins vegar ákveðið að ráðast ekki í gerð nýrrar aðlögunaráætlunar fyrr en niðurstaða samninga við kröfuhafa er í höfn.
STARFSFÓLK Í NÆTURRÆSTINGAR OG ÞVOTTAHÚS
POSITIONS IN CLEANING AND LAUNDRY
Vegna vaxandi verkefna óskum við eftir að ráða öfluga starfsmenn bæði í þvottahús og næturræstingar. Æskilegt er að viðkomandi sé orðinn 20 ára. Um vaktavinnu er að ræða.
Due to our rapidly growing business, we are searching for efficient employees for both cleaning (night shifts) and laundry positions. We prefer that applicants are at least 20 years old.
Hæfniskröfur
Necessary qualifications
•
Þjónustulund og jákvæðni
•
Customer service orientation
•
Áreiðanleiki og stundvísi
•
Dependability and positive attitude
•
Góð samskipta- og samstarfshæfni
•
Excellent communication and cooperation skills
•
Sjálfstæði og öguð vinnubrögð
•
Ability to work independently
•
Samviskusemi
•
Responsibility, reliability and punctuality
•
Góð enskukunnátta
•
Excellent English communication skills
Í næturræstingum er unnið á sjö nátta vaktatörnum með sjö daga frí á milli en í þvottahúsi á 2-2-3 vaktakerfi.
Employees working night shifts work seven days in a row and then they have seven days off. Shifts in laundry room are structured according to the 2-2-3 shift system.
Nánari upplýsingar veita Sigrún Halldórsdóttir sérfræðingur á Mannauðssviði og Stefanía Stefánsdóttir ræstingastjóri í síma 420-8800.
For further information, contact Sigrún Halldórsdóttir (HR specialist) or Stefanía Stefánsdóttir (Cleaning Manager) at 420-8800.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn í gegnum heimasíðu Bláa Lónsins, www.bluelagoon.is/atvinna
Please apply through www.bluelagoon.is/atvinna by June 16th.
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní.
20
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. júní 2016
Héðinn Skarphéðinsson – minning fæddur 21. apríl 1938 – dáinn 30. maí 2016
Móðir okkar, tendamóðir, amma og langamma,
Guðrún Jónsdóttir,
Hé ð i n n S k a r p héðinsson, félagi o k k ar í L i on s klúbbi Keflavíkur, er látinn. Héðinn gekk í Lionsklúbb Keflavíkur árið 1978. Hann gegndi ýmsum embættum fyrir klúbbinn okkar. Hann var meðal annars stallari klúbbsins í allmörg ár. Þá var hann gjaldkeri veturinn 1984 – 1985. Loks var hann formaður klúbbsins veturinn 1996 – 1997. Héðinn var einstaklega góður félagi og vinur. Hann var oft skemmtilegur og lagði alla tíð gott til málanna. Við söknum vinar í stað. Ég minnist þess þegar við félagar í klúbbnum gengum í hús og seldum ljósaperur en féð var nýtt til góðgerðarmála. Þar var Héðinn drjúgur sölumaður og lét sig aldrei vanta. Síðar breyttust áherslur okkar en allt-
(Unna)
lést á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum, Reykjanesbæ, fimmtudaginn 2. júní. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 14. júní kl. 13:00. Þorsteinn Eggertsson, Guðfinna Jóna Eggertsdóttir, Jón Þorkels Eggertsson, Guðrún Eggertsdóttir, og fjölskyldur.
Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, Sigvaldi Hrafn Jósafatsson, Hólmfríður Guðmundsdóttir,
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulega,
Kristins Rúnars Karlssonar, Bogabraut 950, Reykjanesbæ,
Svanlaug Halldórsdóttir, Kristrún Halla Kristinsdóttir, Aazis Freyr Svanlaugarson, Marzuk Ingi Svanlaugar, Karl G. Sævar, Kolbrún Sigurðardóttir, Halldór Ingi Sigurjónsson, og aðrir aðstandendur.
af tók Héðinn fullan þátt í öllu starfi klúbbsins. Héðinn fæddist á Dalvík en ólst upp á Siglufirði. Hann gekk í Gagnfræðaskólann á Siglufirði og útskrifaðist þaðan árið 1951. Þá hóf hann nokkru síðar nám í trésmíði og útskrifaðist frá Iðnskóla Keflavíkur árið 1957. Árið 1960 stofnaði hann ásamt Hreini Óskarssyni trésmíðaverkstæði í Ytri – Njarðvík. Síðar keypti hann Hrein út úr félaginu og rak það síðan alla tíð einn undir nafninu Trésmíðaverkstæði Héðins. Hann var þekktur fyrir að smíða fallegar innréttingar í hús en hann sérhæfði sig í því. Hann þótti afar góður smiður. Héðinn dvaldi í Bandaríkjunum árin 1974 og 1975 og var þar verkstjóri á trésmíðaverkstæði. Eiginkona Héðins var Bergþóra Guðlaug Bergsteinsdóttir. Þau hjón eignuðust þrjú börn en þau eru Kristjana Birna, Aðalheiður og Skarphéðinn Sveinn.
Síðasti fundur Lionsklúbbs Keflavíkur á þessu starfsári var haldinn þann 4. maí. Þá var farin árleg vorferð klúbbsins um Suðurland. Héðinn og eiginkona hans voru með í för. Þá sá ég á Héðni að nokkuð var af honum dregið. Nokkru eftir það lagðist hann á Sjúkrahúsið í Keflavík (HSS) og lést þar 30. maí. En svona er lífsins gangur. Við eigum öll eftir okkar för um dalinn dimma. Ef til vill er vitundin um það eitt af því sem gerir okkur mannleg. Við erum í fylgd hins eilífa samtímamanns allra manna á öllum tímum. Ég votta fjölskyldu Héðins einlæga samúð mína, börnum hans og fjölskyldum þeirra og alveg sérstaklega Bergþóru eiginkonu hans. Fyrir hönd Lionsklúbbs Keflavíkur Gylfi Guðmundsson
Gæði ferðaþjónustunnar ●●Hagsmunamál svæðisins Ferðaþjónustan blómstrar sem aldrei fyrr á Íslandi. Fjölgun ferðamanna hefur farið fram úr öllum spám og við eltum skottið á okkur að veita þá þjónustu sem ferðamaðurinn þarfnast. Eitt af því sem aðilar í ferðaþjónustu þurfa að gaumgæfa eru gæðamálin. Ekki er vænlegt til langs tíma að moka inn ferðamönnum og ætla sér Guðjónína skammtímagróða í þeim Sæmundsefnum. Huga þarf að því dóttir að þjónustan sé í samræmi við það sem greitt er fyrir. Ísland er dýrt land heim að sækja og því enn meiri krafa um gæðaþjónustu. Suðurnesin fara ekki varhluta af fjölgun ferðamanna og hafa gististaðir til að mynda sprottið hratt upp á skömmum tíma. Yfir helming
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir, amma og langamma,
Marta Baldvinsdóttir, Bergvegi 5, Reykjanesbæ,
lést í faðmi fjölskyldunnar 6.júní sl. Þökkum starfsfólki á Hrafnistu Nesvöllum fyrir einstaka umönnun og hlýju. Sigurður B. Guðmundsson Guðmundur Sigurðsson, Kolbrún Geirsdóttir, Baldvin Sigurðsson, Guðlaug Sveinsdóttir, Stefán Þór Sigurðsson, Jórunn Silla Geirsdóttir, Jón Gunnar Sigurðsson, Brynja Þorsteinsdóttir, Ægir Sigurðsson, María Björnsdóttir, Bjarki Sigurðsson, Hólmfríður Jónsdóttir, Smári Sigurðsson, Heiða Guðmundsdóttir, Nanna Guðný Sigurðardóttir, Sigurður Erlingsson, Guðrún Sigurðardóttir, Hans Kristian Müller, Nanna Stefánsdóttir, systkini, barnabörn og barnabarnabörn.
www.n1.is
fyrirtækja í ferðaþjónustu hafa starfað skemur en 10 ár og samtal milli fræðslu og atvinnulífs vantar. Huga þarf vel að þjónustu og afþreyingu og vill MSS leggja sitt af mörkum á því sviði í samráði við ferðaþjónustuna. Margvísleg námskeið verða í boði fyrir ferðaþjónustuna hjá MSS, svo sem samfélagsmiðlar og sýnileiki í ferðaþjónustu, þjónustunámskeið og fleiri námskeið. MSS kappkostar að vinna með fyrirtækjum til að auka gæðin og hvetur þau til að vera í sambandi sé vilji og áhugi fyrir námskeiðum. Hjá MSS starfa sérfræðingar á sviði ráðgjafar fyrir fyrirtæki og fræðsluþarfir þess. Mikil reynsla liggur í að klæðskerasauma fræðslu sem hentar hverju fyrirtæki. MSS mun fara af stað með svæðisbundið leiðsögunám næstkomandi
facebook.com/enneinn
Bílaþjónusta N1 leitar að liðsstyrk N1 óskar eftir að ráða áreiðanlegan, duglegan og reynslumikinn starfsmann á smur- og hjólbarðaverkstæði sitt í Reykjanesbæ. Helstu verkefni: • Almennar bílaviðgerðir • Smur- og hjólbarðaþjónusta Hjólbarðaverkstæði N1 hafa öll hlotið vottun samkvæmt gæðakerfi Michelin, en þá vottun fá eingöngu þau hjólbarðaverkstæði sem uppfylla ströngustu gæðakröfur Michelin.
Hæfniskröfur: • Reynsla og þekking á smur- og hjólbarðaþjónustu • Rík þjónustulund • Samskiptahæfni • Vönduð vinnubrögð • Reglusemi og stundvísi Nánari upplýsingar um starfið veitir Pétur A. Pétursson í síma 440-1372 og 892-6012 eða netfanginu: peturp@n1.is
Hluti af atvinnulífinu VR-15-025
haust. Námið var síðast á dagskrá fyrir rúmum 10 árum og tókst einstaklega vel. Ljóst er að fjölgun ferðamanna krefst þess að fleiri hugi að því að kynna svæðið á ábyrgan og faglegan hátt. Með leiðsögunáminu gefst einstaklingum tækifæri til að bæta atvinnumöguleika sína, aðilar starfandi innan ferðaþjónustunnar geta bætt þjónustu sína til muna, bæði með upplýsingum til ferðamanna og einnig sem möguleika að bæta við þjónustuþáttum og auka afkomu sína. Þannig geta leigubílstjórar aukið gæði þjónustunnar þegar þeir keyra ferðamanninn um Reykjanesið hafi þeir góða þekkingu á svæðinu. Það sama á við um eigendur og starfsfólk gististaða sem eru helstu tengiliðir við ferðamanninn. Þeir geta bætt þjónustuna ásamt því að auka möguleika til fjölbreyttari þjónustu og þar með tekjuaukningar. Gæði, góð þjónusta og verð þurfa að haldast í hendur og eitt af því sem eykur gæðin er aukin menntun/fagvitund í greininni. Það er hagsmunamál svæðisins að auka gæði ferðaþjónustunnar. MSS mun ekki láta sitt eftir liggja á því sviði. Guðjónína Sæmundsdóttir Ferðamálafræðingur og forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum
Eftirlit með heimagistingu á Suðurnesjum ■■Lögreglan á Suðurnesjum og tveir starfsmenn frá embætti ríkisskattstjóra heimsóttu í vikunni nokkra staði þar sem boðið er upp á heimagistingu samkvæmt upplýsingum á vefnum Airbnb.com. Erindið var að athuga hvort tilskilin leyfi væru til staðar sem og bókhaldsgögn yfir reksturinn. Í þeim tilvikum þar sem húsráðendur voru til svara reyndust hvorki vera fyrir hendi leyfi né bókhald. Umræddar heimsóknir lögreglu og ríkisskattstjóra eru liður í að fylgjast með því að þeir sem bjóða upp á heimagistingu í umdæminu fari að lögum og reglum þar að lútandi. Í framhaldinu verður fylgst með þeim stöðum sem þegar hafa verið heimsóttir og jafnframt farið á fleiri staði í sama tilgangi.
fimmtudagur 9. júní 2016
21
VÍKURFRÉTTIR
Ert þú til í breytingar? Nýr stjórnmálaflokkur hefur verið stofnaður. Viðreisn, flokkur sem hefur það að meginmarkmiði að berjast fyrir réttlátara samfélagi, þar sem allir, óháð stöðu, eiga að fá rétt á njóta verðleika sinna. Flokkurinn hafnar forsjárhyggju flokkapólitíkurinnar og vill berjast f yrir réttlátara samÞórunn félagi þar sem hagmunir Benediktsdóttir borgaranna verða teknir fram fyrir sérhagsmuni þeirra afla sem telja að almennt réttlæti og siðferði eigi ekki að gilda um sig. Flokkurinn byggir á frjálslyndum viðhorfum til þeirra mála sem varða stjórn landsins og hagsmuna almennings. Umræða undanfarinna ára fyrir og eftir hrun hefur oft og tíðum verið á furðulegum nótum. Viðtekin gildi um réttlæti, siðferði og heilindi hafa flust til um leið og orð hafa fengið nýjar merkingar. Að „lofa“ einhverju þýðir til að mynda hjá sumum að ekki þurfi að efna það sökum alls konar „ómögulegheita“ sem hafa eða verða fundin upp. Strax þýðir svo það sem hver vill og hentar hverju sinni. Skilin á milli þess sem er sagt og þess sem eftir stendur eru orðin svo loðin að ekki verður við unað.
Stjórnarskráin
Stjórnarskráin er til fyrir fólkið, en fólkið er ekki til fyrir stjórnarskrána. Leikreglur um það hvernig við skulum haga okkar málum með hagsmuni Íslands og Íslendinga í fyrirrúmi er gömul stjórnarskrá, skrifuð á ofanverðri 19. öld fyrir konungsveldið
Danmörku. Hún getur varla átt að vera leiðarvísir lýðveldisins Íslands inn í 21.öldina. Gera verður auknar kröfur um aðgang almennings að ákvörðunum. Það er löngu kominn tími á alvöru breytingar á stjórnarskrá okkar og að því mun Viðreisn stefna.
Nýting auðlinda
Ísland er ríkt land, hvort heldur af mannauði eða náttúruauðlindum. Við eigum öll að geta haft það gott og notið verðleika okkar og hæfileika. En til þess að svo geti orðið þurfa að verða breytingar. Við verðum að setja okkur ný viðmið, nýjan sáttmála um skiptingu gæðanna þar sem öruggt er að arður af nýtingu auðlinda okkar gangi til uppbyggingar sameiginlegra þarfa okkar, frekar en til auðsöfnunar fárra útvaldra. Fyrsta skrefið í þá átt hlýtur að vera breyting á fjármálalegri hlið fiskveiðistjórnunarkerfisins þar sem tryggt verði um aldur og eilífð arður þjóðarinnar og í framhaldi annarra auðlinda hennar. Það er réttur fólksins.
Það er skylda okkar að skoða möguleikana
Tækifæri framtíðarinnar eru mörg. Það er skylda okkar að kanna og hafa opin augu fyrir þeim möguleikum sem eru í stöðunni til að bæta kjör okkar. Það getur ekki talist skynsamlegur kostur að hafna samningum fyrirfram áður en slíkir hafa verið gerðir vegna þess að viðkomandi telji sig vita hver niðurstaðan verður. Viðreisn leggur áherslu á að fram fari kosningar um áframhald aðildarviðræðna við ESB, þær kláraðar verði vilji
UPPBOÐ Einnig birt á www.naudungarsolur.is. til þess og kosið verði um niðurstöðuna að lokum. Við viljum að þjóðin ráði í þessu máli, fremur en kreddur afturhaldssinna.
Jöfnuður tækifæranna
Aukin ójöfnuður er um leið skerðing á frelsi þeirra sem minna hafa. Þeir hafa ekki sömu möguleika til að efla hæfileika sína og lífskjör. Mikilvægt er að sá ójöfnuður sem hlotist hefur meðal annars í gegnum misskiptingu skattkerfisins verði jöfnuð. Með einföldun skattkerfisins og afnámi undanþágna í því má vinna á þeim ójöfnuði. Jöfnun nýtingar tækifæranna tryggir um leið betra og heilbrigðara samfélag.
Hvers vegna Viðreisn?
Þær miklu breytingar sem orðið hafa á undanförnum árum hafa opinberað visst óréttlæti í garð hins venjulega borgara kalla á breytingar. Það var hvatinn að stofnun Viðreisnar. Það er mat þeirra sem nú hafa komið saman að stjórnmál framtíðarinnar eigi að snúast fyrst og fremst um velferð og tækifæri borgaranna frekar en gegndarlausa þjónkun við hagsmunaðila með óljósan tilgang. Gamla pólitíkin þar sem hagmunir almennings eru ekki í fyrsta sæti á að heyra fortíðinni til. Viðreisn er stofnuð til berjast fyrir réttlátara samfélagi, þar sem hagsmunir fólksins í landinu eru settir í fyrsta sæti. Aðilar sérhagsmunanna verða að læra að lúta því. Ert þú til í slíkar breytingar ?
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, mánudaginn 13. júní nk. kl. 9:00. sem hér segir: Heiðarvegur 25, Keflavík, fnr. 2089052 , þingl. eig. Davíð Eldur Baldursson, gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Íbúðalánasjóður. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum, 6. júní 2016. Ásgeir Eiríksson, staðgengill sýslumanns.
Skóhornin
fást hjá okkur
72 cm, Kr. 1800,52 cm, Kr. 1200,42 cm, Kr. 1000,-
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
www.vf.is
Þórunn Benediktsdóttir, hjúkrunarfræðingur, situr í stjórn Viðreisnar.
YFIRMATREIÐSLUMAÐUR ÓSKAST
Air Chefs Catering er nýtt og spennandi flugeldhús á Keflavíkurflugvelli sem sérhæfir sig í framleiðslu á mat um borð í flugvélar sem og öðru góðgæti. Við bjóðum fjölbreytt og skemmtilegt starf.
Í STARFINU FELST M.A. · Matreiðsla · Matseðlagerð · Innkaup · Vaktaskipulag · Gæðamál
Sundlaugaverðir á frumlegu námskeiði Starfsfólk íþróttamiðstöðvanna í Garði og Sandgerði lauk á dögunum þjálfunarverkefninu „Samfó“ sem staðið hefur yfir síðan síðasta haust. Megin markmið verkefnisins var að auka vellíðan og fagmennsku í starfi og byggja upp traust, ábyrgð, samstarf og virkni á vinnustað. Hugmyndin er sú að með aukinni fræðslu og þjálfun sé hægt að draga úr starfsmannaveltu í starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á færni og starfshæfni. Verkefnið var unnið í samstarfi við starfsþjálfunarfyrirtækið Skref fyrir skref ehf. í Sandgerði undir leiðsögn Hansínu Einarsdóttur. Á námskeiðinu var lögð mikil áhersla á öryggismál, upp-
lýsingamiðlun og þekkingu á nánasta umhverfi sundlauganna enda koma flestir ferðamenn við þar. Þá var einnig unnið með viðmót og nafni á afgreiðslu breytt í gestamóttöku. Nokkuð frumlegri nálgun var beitt við námið, svo sem myndbandagerð og vettvangsferðum í stað hefðbundinna fyrirlestra. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar starfsmönnum Íþróttamiðstöðvarinnar í Sandgerði voru veittar viðurkenningar við lok námskeiðsins. Við athöfnina sagði Jón Hjálmarsson, forstöðumaður, að námskeiðið muni skila betri vinnustað. „Allt öryggi, þjónusta og viðmót á eftir að vera með miklum sóma hér eftir,“ sagði hann.
SUMARFRÍ 15. júní er síðasti opnunardagur fyrir sumarfrí og þá er
50% afsláttur af öllu. Opnum aftur 3. ágúst. Gleðilegt sumar.
Á myndinni frá vinstri má sjá Hansínu Einarsdóttur frá Skref fyrir skref, Jón Hjálmarsson, forstöðumann íþróttamiðstöðvanna í Sandgerði og Garði, Rut Sigurðardóttur, forvarna- og frístundafulltrúa, Andreu Báru Andrésdóttur, Ólöfu Ólafsdóttur, Jón Ásgeir Harðarson, Þórdísi Stefánsdóttur og Ásu Guðmundsdóttur, starfsmenn Íþróttamiðstöðvarinnar í Sandgerði.
HÆFNISKRÖFUR · Sveinspróf í matreiðslu · Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni · Almenn tölvukunnátta · Góð enskukunnátta · Reynsla af veisluþjónustu kostur
Umsóknir berist á airchefs@airchefs.is fyrir 20. júní 2016 Nánari upplýsingar veitir Magnús, airchefs@airchefs.is
FRAMLAGNING KJÖRSKRÁR Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM
KOSNINGARÉTT VIÐ FORSETAKJÖR EIGA ÞEIR KJÓSENDUR SEM EIGA KOSNINGARÉTT TIL ALÞINGIS, SAMKVÆMT 1. GR. LAGA UM FRAMBOÐ OG KJÖR FORSETA ÍSLANDS NR. 36/1945, SBR. 1. GR. LAGA UM KOSNINGAR TIL ALÞINGIS NR. 24/2000. Athygli kjósenda í Sveitarfélaginu Vogum er vakin á því að kjörskrá vegna forsetakosninganna þann 25. júní næstkomandi verður lögð fram á bæjarskrifstofum þann 9. júní 2016. Kjörskrá skal liggja frammi í a.m.k. átta daga fyrir kjördag, þ.e. frá og með 17. júní 2016. Einnig hefur verið opnað fyrir uppflettingu á vefnum „Hvar á ég að kjósa?“ á heimasíðu Þjóðskrár Íslands, www.skra.is, þar sem hægt er að kanna hvort og hvar einstaklingar eru á kjörskrá. Hver sem er getur gert athugasemdir við bæjarstjórn um að nafn einhvers vanti á kjörskrá eða sé þar ofaukið. Slíkar athugasemdir er heimilt að gera fram á kjördag. Komi fram athugasemd um að nafn skuli tekið af kjörskrá skal það þegar tilkynnt hlutaðeigandi einstaklingi. Bæjarstjórn skal þegar taka til meðferðar athugasemdir er henni berast við kjörskrá og gera leiðréttingu á henni ef við á, en heimilt er að gera slíka leiðréttingu fram á kjördag. Enn fremur skal sveitarstjórn leiðrétta kjörskrá ef henni berst vitneskja um andlát eða um að einhver hafi öðlast eða eftir atvikum misst íslenskt ríkisfang. Bæjarstjórn skal þá tilkynna hlutaðeigandi um leiðréttingar á kjörskrá og þeirri sveitarstjórn annarri sem málið getur varðað. Bæjarstjóri
22
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 9. júní 2016 Arnór hefur verið sjóðandi heitur með landsliðinu á árinu. Vonandi fær hann sénsinn á EM.
Víkurfréttir leituðu til nokkurra fótboltaáhugamanna á Suðurnesjum. Við fengum okkar fólk til þess að spá í spilin fyrir EM en þjóðin stendur á öndinni og búast má við þjóðhátíðarstemningu þegar keppnin hefst núna á laugardag. Spekingarnir búast við góðu gengi Íslendinga og búast jafnframt við því að Suðurnesjastrákarnir komi sterkir inn.
Arnór er okkar vonarstjarna á mótinu Teitur Örlygsson er eldheitur aðdáandi íslenska landsliðsins í fótbolta. Hann verður í Bandaríkjunum á meðan keppni stendur en ætlar að sjálfsögðu að horfa á alla leikina. Hann spáir Íslendingum góðu gengi og spáir því jafnframt að Njarðvíkingurinn Arnór Ingvi Traustason eigi eftir að skora á mótinu. Hverjir vinna EM?
Það verður Þýskaland.
Hvaða veitingar/drykki ertu að vinna með yfir leikjum íslenska liðsins?
Líklega verður það appelsínusafi.
Hvernig munu Suðurnesjamennirnir standa sig á mótinu?
Þeir verða auðvitað til sóma, býst ekki við að Ingvar fái séns nema að meiðsli setji strik í reikninginn. Arnór Ingvi er á mörkunum að vera í byrjunarliði, verður það 100% í einhverjum leik. Hann hefur stimplað sig inn sem okkar vonarstjarna í þessari keppni. Er sjóðandi heitur og á eftir að setja mark á EM.
Hvernig finnst þér nýi búningurinn hjá landsliðinu?
Ingvar tryggir okkur í átta liða úrslit Guðjón Árni Antoníusson leikmaður Keflvíkinga ætlar að bregða sér til Frakklands ásamt góðum félögum úr Garðinum sem kalla sig Teboðið. Hann spáir því að Ísland komist alla leið í átta liða úrslitin en hann hefur ákveðið að horfa á leikina alla á mismunandi og fjölbreyttum stöðum. Hverjir vinna EM?
Frakkarnir taka þetta á heimavelli!
Hvaða veitingar/drykki ertu að vinna með yfir leikjum íslenska liðsins?
Ískalt vatn og ávaxtabakka. Jafnvel grillaða burgera.
Auðvitað er búið að kaupa nýja búninginn, ég tók bláa búninginn en sonur minn Aron þann hvíta.
Hvernig munu Suðurnesjamennirnir standa sig á mótinu?
Arnór stendur sig vel enda algjör toppdrengur sem er svo sannarlega að springa út. Ingvar skilar sínu og vel það þegar hann kemur inn á í 16 liða úrslitum og tryggir okkur inn í 8 liða úrslit gegn Frökkum.
Hvar á að horfa á leikina og með hverjum?
Ég verð í USA yfir EM og horfi á allt saman á ESPN með góðum vinum. Það útskýrir orange djúsinn (6 tíma tímamismunur á Florida & Frakklandi)
Hvernig finnst þér nýi búningurinn hjá landsliðinu?
Hvernig mun Íslendingum ganga?
Búningurinn er geggjaður. Læt sauma einn á mig!
Ísland fer upp úr riðlinum, vil ekki kjafta meira í ykkur svo þetta verði áfram spennandi.
Hvar á að horfa á leikina og með hverjum? Feðganir Aron og Teitur flottir í nýju landsliðstreyjunni.
Ég tek leikinn gegn Portúgal með fjölskyldunni. Ungverjalands leikinn með Teboðinu í Marseille.
Guðjón ætlar að skella sér til Frakklands og horfa á Ísland spila við Ungverjaland.
Leikinn gegn Austurríki í Skrúðgarðinum með tugum þúsunda Suðurnesjamanna. 16 liða úrslitin mun ég sjá í IKEA en það verður Ísland-Svíþjóð. Það er svo óákveðið hvar ég horfi á 8-liða úrslitin gegn Frakklandi, en þar mun ævintýrið því miður enda.
Landsliðsbúningurinn venst vel
Hefur tröllatrú á strákunum
Bentína Frímannsdóttir knattspyrnukona úr Grindavík heldur að Íslendingar eigi eftir að koma á óvart á Evrópumótinu. Hún ætlar að sjálfsögðu að fylgjast með öllum leikjunum og gera sér glaðan dag.
Kristrún Ýr Hólm hefur farið vel af stað með ungu Keflavíkurliði í 1. deild kvenna. Hún hefur tröllatrú á íslenska liðinu á EM og býst við að þeir fari upp úr riðlinum. Hún er spennt fyrir keppninni og ætlar að sjálfsögðu að gera sér glaðan dag og horfa á leikina með fjölskyldu og vinum.
Hverjir vinna EM?
Mér finnst Þjóðverjar mjög líklegir til þess að vinna mótið eða Spánverjar. Ætla að tippa á að annað hvort liðið vinni.
Hvaða veitingar/drykki ertu að vinna með yfir leikjum íslenska liðsins?
Bentína vonar að Suðurnesjamennirnir fái tækifæri á EM.
ég að þeir muni standa sig vel.
Mér finnst hann ágætur, fyrst var ég ekki alveg nógu sátt en hann venst vel. Ég á ekki treyju en hugsa að ég fái mér.
Ég hugsa að það verði mikið grillað á meðan EM stendur yfir og ætli það verði ekki bjór á kallinn og kók á óléttu konuna.
Hvar á að horfa á leikina og með hverjum?
Hvernig munu Suðurnesjamennirnir standa sig á mótinu?
Hvernig mun Íslendingum ganga?
Ég vona innilega að þeir fái tækifæri og ef svo er þá held
SJÓNVARP V Í K U R F R É T TA
SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!
Hvaða veitingar/drykki ertu að vinna með yfir leikjum íslenska liðsins?
Hvernig finnst þér nýi búningurinn hjá landsliðinu?
Ætli það sé ekki bara Coke og pipar Nóakropp.
Hvernig munu Suðurnesjamennirnir standa sig á mótinu?
Ég tel að þeir eiga eftir að standa sig með prýði enda klassa drengir.
Alltaf skemmtilegast að horfa á EM í góðra vina hópi og með fjölskyldunni.
Hvernig finnst þér nýi búningurinn hjá landsliðinu?
Mér finnst landsliðsbúningurinn rosalega flottur. Maður getur ekki farið inn í EM án landsliðstreyju svo ég fjárfesti í einni á vináttuleik Íslands gegn Liechtenstein síðasta mánudag.
Held þeir eigi eftir að koma á óvart en það verður erfitt að komast upp úr þessum riðli. Vona samt það besta.
NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ
WWW.VF.IS/VEFTV
Kristrún telur að Ísland komist í 8-liða úrslit.
Hverjir vinna EM?
Ég hef fulla trú á íslenska landsliðinu en annars hef ég alltaf verið mikill aðdáandi Þjóðverja þegar kemur að stórmótum.
Hvar á að horfa á leikina og með hverjum?
Ég mun líklega horfa á leikina heima ásamt fjölskyldu og vinum og ég hef tröllatrú á strákunum. Tel ég að við munum allvega komast í 8 liða úrslit, vonandi lengra.
fimmtudagur 9. júní 2016
23
VÍKURFRÉTTIR
Grindvíkingar eiga Alfreð Finnbogason
Glæsilegur Grindvíkingur. Alfreð á sínum yngri árum.
●●„Ekki spurning, hann er Grindvíkingur,“ ● segir Sesselja Pétursdóttir móðir Alfreðs Ef þú spyrð Grindvíkinga þá eiga Suðurnesjamenn þrjá fulltrúa á Evrópumóti karla í knattspyrnu sem hefst núna á laugardag. Framherjinn snjalli Alfreð Finnbogason ólst upp í Grindavík til tíu ára aldurs. Hans fólk í móðurætt er þaðan og þar á hann
marga góða vini enn þann dag í dag. Grindvíkingar eru á því að þeir eigi sinn fulltrúa á Evrópumótinu en þá eru Suðurnesjamennirnir orðnir þrír á mótinu, en Njarðvíkingarnir Arnór Ingvi Traustason og Ingvar Jónsson eru einnig í hópnum.
Myndum afneita honum ef hann væri fjöldamorðingi ■■Jón Gauti Dagbjartsson fótboltaáhugamaður með meiru er ekki í nokkrum vafa um að Alfreð sé Grindvíkingur. „Já við teljum Alfreð Finnboga vera Grindvíking. Við eigum hann. Ef hann væri hins vegar fjöldamorðingi þá myndum við afneita honum,“ segir Grindvíkingurinn Jón Gauti og hlær dátt. Jón Gauti ætlar ekki að fara sjálfur til Frakklands en mun taka leikina í sjónvarpinu heima með tilheyrandi veisluhöldum. „Ég sinni bara Olís og berst áfram fyrir ykkur sauðsvartan almúgann í því að halda olíuverðinu niðri,“ bætir Grindvíkingurinn glettni við. Hann er spenntur fyrir mótinu en er hræddur um að Íslendingar geri of miklar væntingar. „Þetta leggst vel í mig en ég er pínu smeykur vegna þess að við Íslendingar gerum alltaf miklar væntingar. Ég sé bara fyrir mér að við séum að fara að lyfta þessari dollu en svo töpum við kannski öllum leikjunum, þá verður maður brjálaður. Hver leikur verður tekinn hátíðlegur. Maður verður þó líklega að borða þremur tímum fyrir leik því maður verður svo stressaður að matarlystin fer.“
dag er Alfreð tengdur stóru vörumerki sem alltaf hefur haft mikla tengingu við Grindavík. „Hann fékk alltaf lýsi hjá mér en ég kom því í kring að Lýsi samdi við hann og nú er hann orðinn andlit fyrirtækisins. Langafi hans átti hérna verksmiðjuna þannig að það verður ekki meira grindvískt en að vera andlit Lýsis, því fyrirtækið tengist Grindvík, á rætur hingað og hefur stutt við fótboltann í bænum í yfir 30 ár,“ segir Jónas sem spáir Íslendingum upp úr sínum riðli á EM. „Það er svo mikill metnaður í þeim að þeir eru ekki í þessu nema til þess að vinna. Ég vona að Suðurnesjamönnum gangi vel á mótinu.“
Grindvíkingar í U-21 liði Íslands. Jósef Kristinn, Óskar Pétursson og Alfreð Finnbogason.
Mamman ól hann upp sem Grindvíking ■■Sesselja Pétursdóttir, móðir Alfreðs, hefur alið upp í stráknum að hann sé úr Grindavík. „Ég myndi nú segja það, ekki spurning. Hann talar alltaf um sig sem Grindvíking. Þar sleit hann barnsskónum,“ segir Sesselja í samtali við blaðamann Víkurfrétta. „Það eru allir í Grindavík voðalega stoltir af honum,“ bætir hún við. Sjálf ólst Sesselja upp í Grindavík. „Ég á sterkar rætur þarna og segist alltaf vera frá Grindavík. Ég hef alið það upp í börnunum, sérstaklega þeim eldri.“
Alfreð hefur alltaf verið duglegur að taka Lýsi. Nú er hann orðinn andlit fyrirtækisins.
Verður ekki meira grindvískt en að vera andlit Lýsis ■■Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, þekkir vel til Alfreðs. Hann hlær bara þegar blaðamaður spyr hvort Alfreð sé Grindvíkingur. „Auðvitað. Hann er fæddur og uppalinn hér. Móðir hans Sesselja Pétursdóttir er héðan, en afi hennar átti eitt sinn Fiskifjöl & Lýsi sem brann hérna um árið.“ Alfreð og Vilmundi syni Jónasar er vel til vina og hefur Vilmundur heimsótt Alfreð í öll þau lönd sem framherjinn hefur leikið í atvinnumennskunni. Grindvíkingar tala sín á milli um sinn mann í landsliðinu þegar Alfreð er annars vegar. „Við tölum um okkar mann í hópnum og það gerir hann sjálfur. Hér eru hans rætur.“ Jónas var með lítinn fótboltavöll á blettinum hjá sér þegar þessir strákar voru að slíta barnsskónum. „Þar voru þeir öllum stundum í fótbolta. Sem barn var Alfreð algjör yfirburðarmaður og það sást langar leiðir hvert hann færi.“ Í
Foreldrar Alfreðs eru á leið til Frakklands um helgina og ætla sér að sjá alla leiki Íslands á mótinu. Sesselja á góðar minningar frá Grindavík og segir að þar hafi verið gott að ala upp börn. „Það að alast upp í Grindavík var áhyggjulaust. Það var gott að ala krakkana upp þar, ekki spurning. Maður er í raun með marga foreldra sem aðstoða og allir vinna saman. Ég hugsa að það séu margir í Grindavík sem telja sig eiga eitthvað í Alfreð og það má alveg vera þannig,“ segir mamma framherjans öfluga að lokum.
FÓTBOLTASNILLINGUR VIKUNNAR Amelía Rún Hjartardóttir er fótboltasnillingur vikunnar
GETUR HALDIÐ BOLTANUM 52 SINNUM Á LOFTI Amelía Rún Hjartardóttir er að verða 12 ára og hún spilar með liði RVK, sem er sameiginlegt lið Reynis, Víðis og Keflavíkur. Hún heldur með Chelsea í enska boltanum og hefur meira að segja farið á leik með liðinu. Markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir er fyrirmynd Amelíu í fótboltanum, en hún stefnir líkt og fyrirmyndin á atvinnumennsku og feril með landsliðinu í framtíðinni. Hvað hefur þú æft fótbolta lengi? Frá því að ég var 5 ára. Hvaða stöðu spilar þú? Er miđjumađur. Hvert er markmið þitt í fótbolta? Markmiðið er ađ verða betri og komast ì landsliðið og verða atvinnumaður ì fótbolta. Hversu oft æfir þú á viku? Fimm sinnum ì viku, þrjár fótboltaæfingar og tvær í metabolic. Hver er þinn eftirlætis fótboltamaður/kona? Eden Hazard, Ronaldo, Messi og Margrét Lára og Sara Björk. Áttu þér einhverja fyrirmynd í boltanum? Margrét Lára er mín fyrirmynd. Hefurðu farið á fótboltaleik erlendis? Já ég hef farið à leik með Chelsea. Hversu oft getur þú haldið á lofti? Get haldið boltanum 52 sinnum á lofti. Hvaða erlenda félag heldur þú upp á? Chelsea er mitt uppáhalds lið.
ÍÞRÓTTIR
www.vf.is/ithrottir Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001
Mundi Á nýja nafnið á sameiningunni að vera Sandgarður?
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
UPPLIFÐU EM Í NÝJU SONY SJÓNVARPI! ÁSKRIFT AÐ EM HJÁ SÍMANUM FYLGIR ÖLLUM SJÓNVÖRPUM
Friðrik kemst aftur heim ●●Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti að ráða fleiri starfsmenn á sambýli þar sem Friðrik býr ■■„Þetta eru mjög góðar fréttir,“ segir Friðrik Guðmundsson, sem beðið hefur á Landspítalanum í tvo mánuði eftir að geta snúið aftur heim til sín. Hann sér nú fram á að biðin verði brátt á enda. Friðrik er með sjaldgæfan erfðasjúkdóm og hefur undanfarin ár búið á sambýli við Lyngmóa í Reykjanesbæ, ásamt bróður sínum og einum öðrum íbúa. Friðrik fékk hjartastopp 27. mars síðastliðinn og var þá fluttur á Landspítalann. Hann mun hér eftir þurfa að notast við öndunarvél en fleiri starfsmenn þarf að ráða á sambýlið til umönnunar Friðriks nú en áður vegna tilkomu hennar. Ástæða þess að Friðrik gat ekki snúið heim voru þau óljósu mörk sem verið geta á milli heilbrigðis- og félagsþjónustu. Hið fyrrnefnda er á forræði ríkisins en félagsþjónusta á hjá sveitarfélögum. Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti svo á fundi sínum 2. júní síðastliðinn að ráða í fleiri stöðugildi á sambýlinu. Fjallað var um málið í fjölmiðlum í síðustu viku og telur Friðrik að það hafi komið hreyfingu á gang þess. „Ásmundur Friðriksson þingmaður talaði mínu máli hjá Reykjanesbæ og hjálpaði til við að fá þetta í gegn,“ segir Friðrik sem hlakkar til að snúa aftur heim. Hann vonast til að það verði síðar í sumar. Bæjarráð samþykkti fjárveitingu upp á 16,5 milljónir og gerir ráð fyrir að fjármagn komi frá Jöfnunarsjóði í samræmi við frumvarp sem liggur fyrir Alþingi.
SONY WD6 40" – Verð: 99.990 kr. 48" – Verð: 129.990 kr. Örþunnt og flott Full HD sjónvarp. Frábær myndgæði, nettengjanlegt og innbyggt Wi-Fi.
5 ÁRA ÁBYRGÐ
5 ÁRA ÁBYRGÐ
SONY W8 50" – Verð: 149.990 kr. 55" – Verð: 179.990 kr.
Sérlega vandað Full HD sjónvarp með frábærri X-Reality PRO myndvinnslu. Android stýrikerfi og innbyggt Wi-Fi.
SONY HTCT780 heimabíó 5 ÁRA ÁBYRGÐ
SONY XD85 55" – Verð: 289.990 kr. 65" – Verð: 419.990 kr. 75" – Verð: 799.990 kr.
Verð: 89.990 kr. Tilboð:71.920 kr. Stórt hljóð fyrir lítið pláss. Aðeins einn hátalari og þráðlaust bassabox sem skilar frábærum hljómgæðum.
Ómótstæðileg örþunn hönnun og fullkomin baklýsing. 4K Ultra HD og HDR sem tryggir einstök myndgæði.
HAFNARGATA 40 - S. 422 2200
Úrvalið af tölvu og fylgihlutum eru í Omnis
REYKJANESBÆ