Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Nýr& betri opnunartími
Virka daga 9-20
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17
Helgar 10-20 Nettó reykjaNesbæ
Auglýsingasíminn er 421 0001
vf.is
F IMMTUDAGUR 12 . NÓ VE MBE R 2 0 15 • 4 4. TÖ LU BLA Ð • 36. Á RGA NGU R
ATH!
NÝR OG BETRI
OPNUNARTÍMI Virka daga
10:00 – 19:00
Helgar
10:00 – 18:00
KASKO • IÐAVÖLLUM 14 • REYKJANESBÆ Ungir knattspyrnukappar við leik á vellinum við Akurskóla.
Skoða að skipta út dekkjakurli á sparkvöllum Reykjanesbær bendir á gögn sem segja að kurlið sé ekki hættulegt. Læknar eru ósammála. Þingmaður segir að bærinn eigi að skipta kurlinu strax út.
Á
sparkvöllum við Akurskóla í Reykjanesbæ, við Grunnskólann í Sandgerði og við Grunnskólann í Garði er dekkjakurl, af þeirri tegund sem Læknafélag Íslands ályktaði árið 2010 að geti verið heilsuspillandi. Fram kom í ályktun félagsins að full ástæða sé til að hafa sérstakar áhyggjur af leik barna á slíku undirlagi. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjanesbæ hefur verið ákveðið að leggja til við gerð fjárhagsáætlunar Reykjanesbæjar árið 2016 að gúmmíkurlinu á sparkvelli við Akurskóla verði skipt út í næstu viðhaldsframkvæmdum. Að sögn Jóns Ben Einarssonar, sviðsstjóra umhverfis-, skipulags- og byggingamála í Sandgerði og Garði
er verið að skoða málið hjá sveitarfélögunum. Ekki liggur fyrir hvað verði gert en að vel sé fylgst með umræðunni. Silja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi er meðal flutningsmanna tillögu á alþingi um að notkun gúmmíkurls úr dekkjum verði bönnuð á leikog íþróttavöllum. Hún segir mikilvægt að Reykjanesbær bregðist skjótt við og fjarlægi dekkjakurlið við Akurskóla. „Mér finnst að bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ ættu að sýna ábyrgð í verki og skipta eitraða kurlinu út strax við Akurskóla og ekki bíða eftir afgreiðslu ríkisvaldsins. Börnin eiga alltaf að njóta vafans,“ segir hún. Á vef Reykjanesbæjar kemur f ram að málið haf i verið
skoðað. Viðræður við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hafi leitt í ljós að ekki sé ástæða til að aðhafast meira í málinu að svo stöddu. Þá kemur fram að álit Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja byggi á rannsóknarskýrslu Me ng u n ar v ar n a s tof nu n ar danska umhverfisráðuneytisins frá árinu 2008 þar sem meðal annars kemur fram að gúmmíkurl úr bíldekkjum valdi hvorki skaða við innöndun rykagna úr kurlinu, nema fyrir fólk sem er viðkvæmt í öndunarfærum, né verulegum skaða fyrir umhverfið, svo sem mengunar grunnvatns. Í skýrslunni er vísað til svissneskrar, franskrar og þýskrar rannsóknar sem sýna sambærilegar niðurstöður sem að mati Reykjanesbæjar þykir ekki ástæða til að rengja.
„Við höfum ekkert annað í höndunum en þessa skýrslu og samkvæmt henni er ekki talin sérstök ógn af þessu gúmmíkurli. Hins vegar er gert ráð fyrir að þessu sé skipt út þegar þar að kemur og þar spila ekki síður inn í umhverfisáhrif,“ segir Magnús H. Guðjónsson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Þórarinn Guðnason hjartalæknir bar upp ályktun um dekkjakurl á aðalfundi Læknafélags Íslands árið 2010. Í ályktuninni kemur meðal annars fram að í dekkjakurli séu krabbameinsvaldandi efni og önnur eiturefni sem geti verið hættuleg fyrir börn og aðra iðkendur íþrótta á gervigrasvöllum.
Í KVÖLD KL. 21:30 Á ÍNN OG VF.IS Níu ára í úrslitum jólastjörnu Björgvins
Fá afleiðingar umferðarslyss beint í æð Hvernig verður listsýning til?
FÍTON / SÍA
Yfir hundrað þættir frá upphafi! einföld reiknivél á ebox.is
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
VIKULEGUR MAGASÍNÞÁTTUR
ALLA FIMMTUDAGA KL. 21:30 Á ÍNN OG VF.IS
SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA - alltaf eitthvað nýtt í hverri viku!
markhönnun ehf
D R I K S N DA 50%
AFSLÁTTUR
39%
AFSLÁTTUR
40%
AFSLÁTTUR
22% 497 AFSLÁTTUR |
1.097
AFSLÁTTUR
KRKR KGKG
1.079
21%
KR KG
AFSLÁTTUR
FERSKUR GRÍSABÓGUR
30%
VERÐ ÁÐUR 829 KR/KG
497
VERÐ ÁÐUR 1.996 KR/KG
998
AFSLÁTTUR
KR KG
DÖNSK BJÓRSKINKA VERÐ ÁÐUR 1.998 KR/KG
1.598
KR KG
VERÐ ÁÐUR 1.761 KR/PK
1.391
VERÐ ÁÐUR 1.761 KR/KG
1.233
TTU
KIMS SNAKK
KR PK
KJÚKLINGALUNDIR 700 G
10%
AFSL Á
KR PK
KR KG
KJÚKLINGABRINGUR FROSNAR - 900 G
VERÐ ÁÐUR 1.798 KR/KG
40%
VERÐ ÁÐUR 637 KR/PK
20%
VERÐ ÁÐUR 1.798 KR/KG
PURUSTEIK
AFSLÁTTUR
KÍNARÚLLUR MEÐ KARRÍKJÚKLING/ KJÚKLING 600 G
HAMBORGARHRYGGUR
BAYONESSKINKA
R
|
KR PK
DAGAR
BÆKLINGURINN KOMINN Í HÚS
25%
AFSLÁTTUR
398
KR KG
20%
2.098
AFSLÁTTUR
KR KG
KR KG
X-TRA SAFI 1,5 L
VERÐ ÁÐUR 389 KR/KG
KR KG
2.999
VERÐ ÁÐUR 2.384 KR/KG
ANANAS DEL MONTE
195
VERÐ ÁÐUR 3.998 KR/KG
KJÚKLINGABRINGUR Í DANSKRI PIPARMARINERINGU
GRÍSASKANKAR FROSNIR VERÐ ÁÐUR 498 KR/KG
FERSKT LAMBA PRIME
50%
270 ML
174
AFSLÁTTUR
GRASTEEN SALÖT
898
KR STK
EARTH FRIENDLY FRÁBÆRAR UMHVERFISVÆNAR HREINLÆTISVÖRUR
25%
AFSL Á
TTU
R Netto.is
269
KR STK
SMURBRAUÐ 2 STK
VERÐ FRÁ:
229
VERÐ ÁÐUR 299 KR/KG
COCIO KAKÓMJÓLK
KR PK
ANTON BERG STANGIR
149
KR STK
KR STK
4
fimmtudagur 12. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
HEIÐARSKÓLI
STÆRÐFRÆÐIKENNARI ÓSKAST Heiðarskóli óskar eftir að ráða kennara í stærðfræði á mið- og unglingastigi. Um er að ræða 100% starf vegna forfalla. Í Heiðarskóla er öflugur starfsmannahópur og þar er lögð áhersla á metnaðarfullt skólastarf. Unnið er eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar. Umsóknum skal skilað rafrænt á www.reykjanesbaer. is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig eru að finna upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur. Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2015. Umsókn fylgi afrit af leyfisbréfi og ferilskrá ásamt upplýsingum um meðmælendur. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sóley Halla Þórhallsdóttir skólastjóri í síma 8944501 eða 4204500.
SÚLAN AFHENT Súlan, menningarverðlaun Reykjanesbæjar árið 2015, verður afhent við formlega athöfn í Bátasal Duus Safnahúsa föstudaginn 13. nóvember n.k. kl. 18.00. Styrktar- og stuðningsaðilum Ljósanætur verður við sama tækifæri þakkaður stuðningurinn og Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýninguna Kvennaveldið: Konur og kynferði. Allir velunnarar menningarlífs í Reykjanesbæ eru boðnir velkomnir til að gleðjast með okkur yfir blómlegu menningarlífi og þiggja veitingar.
-fréttir
pósturu vf@vf.is
Engir biðlistar á leikskóla í Reykjanesbæ
H
- Fjölgun dagforeldra og því ekki biðlistar þar heldur
já leikskólum Reykjanesbæjar eru nú 56 laus pláss. Að sama skapi eru ekki neinir biðlistar eftir dagforeldrum. Málið var rætt á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku. Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, velti þeirri spurningu upp hver ástæðan fyrir þessu væri og hvort barnafólki í bænum væri að fækka eða hvort færri börn væru nú í yngstu árgöngunum. Kristinn Jakobsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, sagði alvarlegt að ekki væri hægt að nýta öll þessi leikskólapláss og að breyta þyrfti reglum á þann hátt að hægt yrði að taka yngri börn inn á leikskólann til að fylla lausu plássin. Í svari Elínar Rósar Bjarnadóttur, formanns fræðsluráðs og bæjarfulltrúa Frjáls afls, kom fram að helsta skýringin væri sú að á Ásbrú er nokkuð um flutninga. „Íbúar þar koma og fara. Þar býr kannski fólk í námi með börn, svo flytur
það í burtu og í staðinn kemur fólk sem á ekki börn. Fækkunin á sér aðallega stað þar en ekki niðri í Reykjanesbæ,“ sagði hún. Í máli Elínar Rósar kom jafnframt fram að hún teldi stöðuna ekki áhyggjuefni og að því bæri að fagna að ekki væru biðlistar eftir plássi á leikskólum og hjá dagforeldrum. „Við
Tekjur Voga hækka
NESVELLIR
LÉTTUR FÖSTUDAGUR Dói og Elís úr Félagi harmonikkuunnenda spila kl. 14:00 á morgun. Allir hjartanlega velkomnir.
LÚÐRASVEITATÓNLEIKAR Í HÖRPU Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, mið- og elsta sveit, taka þátt í stórtónleikum Samtaka íslenskra skólalúðrasveita, SÍSL, í Norðurljósasal Hörpu, sunnudaginn 15. nóvember. Miðsveitin leikur kl. 15:00 og elsta sveitin leikur kl. 16:00. Tónleikarnir í heild sinni standa yfir frá kl.11 – 18. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Skólastjóri
NEYÐARSÍMI AA Neyðarsími AA á Suðurnesjum er 7775504. Síminn er opinn allan sólarhringinn. Opnir AA fundir eru á fimmtudögum kl. 21:00 að Klapparstíg 7 og mánudögum kl. 21.00 í Kirkjulundi. Allir velkomnir.
NETSPJALL Þjónustuver Reykjanesbæjar býður nú upp á Netspjall gegnum vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is, til að auka þjónustu við viðskiptavini. Hægt er að senda stuttar og hnitmiðaðar spurningar og fá svör um hæl frá starfsfólki Þjónustuvers.
erum greinilega að þjónusta barnafólk vel og þurfum ekki að hafa áhyggjur af þessu. Þó að við vildum vissulega hafa stöðugleika i þessu en hverfið Ásbrú er ekki enn fastmótað.“ Dagforeldrum í Reykjanesbæ hefur fjölgað og skýrir það hvers vegna ekki eru biðlistar eftir plássi hjá þeim.
Allir 60 ára og eldri fari í inflúensubólusetningu
B
ólusetning við inflúensu hófst hjá HSS í september og verður henni haldið áfram fram í janúar. Fólk er hvatt til að koma í inflúensubólusetningu og hefur sóttvarnalæknir mælst til þess að eftirfarandi hópar njóti forgangs: 60 ára og eldri, öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrnaeða lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Þá eru þungaðar konur og heilbrigðisstarfsmenn sem annast sjúka einnig sérstaklega hvattir til að fara í bólusetningu. Allir aðrir sem vilja eru velkomnir. Fullfrískt fólk getur einnig veikst illa af inflúensu en minni líkur eru á alvarlegum fylgikvillum hjá þeim. Samkvæmt upplýsingum af vef Embættis landlæknis geta flestar bólusetningar valdið einhverjum aukaverkunum. Alvarlegar aukaverkanir bólusetninga eru mjög fátíðar en geta sést eftir um það bil eina af hverri 500.000 til 1.000.000 bólusetningum. Hugsanlegur skaði af bólusetningu er því margfalt minni en sá skaði sem hlýst af sjúkdómnum sem bólusetningin kemur í veg fyrir. Meðal algengra aukaverkana eru hiti og vægar stað-
bundnar aukaverkanir með roða, eymslum og hersli á stungustað en þær líða að jafnaði frá innan tveggja sólahringa. Sóttvarnalæknir bendir á að fjölmargar rannsóknir á inflúensubólusetningu hjá öldruðum hafi sýnt að þær komi í veg fyrir inflúensusýkingu og alvarlegar afleiðingar hennar. Cochrane-stofnunin hefur á undanförnum árum birt mat sitt á rannsóknum á inflúensubólusetningu og komist að því að bólusetningin sé gagnleg öldruðum og öðrum þeim sem þola sýkinguna illa. Þessi niðurstaða er í samræmi við niðurstöðu annarra ábyrgra aðila eins og amerísku sóttvarnastofnunarinnar og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem telur að bólusetningar gegn inflúensu geti dregið úr sjúkrahúsinnlögnum aldraðra utan stofnana sem nemur 25 til 30 prósent og jafnframt geti þær dregið úr heildardánartíðni aldraðra um 39 til 70 prósent þegar inflúensufaraldur gengur. Sóttvarnalæknir telur að inflúensubólusetning almennt verndi allt að 60 til 80 prósent bólusettra gegn inflúensu, allt eftir því hversu góð samsvörun er á milli bóluefnisins og inflúensuveirunnar sem geisar.
XAllt X bendir til þess að tekjur yfirstandandi árs hjá Sveitarfélaginu Vogum verði hærri en upphafleg fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Stærstur hluti tekna Voga eru útsvarstekjur, þar á eftir koma ýmis framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, fasteignaskattar og ýmsar þjónustutekjur. Samkvæmt upphaflegri áætlun ársins var gert ráð fyrir tæpum 400 m.kr. í útsvarstekjur, en í uppfærðri útkomuspá verða þær að óbreyttu rúmar 421 m.kr., hækka um 21 m.kr. Á móti kemur sú staðreynd að tekjujöfnunarframlag lækkar frá því sem áætlað var, úr 65 m.kr. í 53 m.kr., eða um 12 m.kr. Þegar báðir þessir liðir eru lagðir saman hækka því tekjur sveitarfélagsins um 9 m.kr. frá því sem upphafleg áætlun gerði ráð fyrir. „Ástæða þess að tekjujöfnunarframlagið lækkar er sú að tekjur á hvern íbúa sveitarfélagsins hafa hækkað frá fyrra ári, og eru nú nær landsmeðaltalinu. Það eru vitaskuld jákvæðar fréttir fyrir sveitarfélagið og íbúa þess, og má e.t.v. bæði skýra með fjölgun íbúa og bættu atvinnuástandi,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, í vikulegu fréttabréfi sem hann gefur út í Vogum.
t s m e r f g – fyrst o
ódýr!
Glæsiloergðt kjötb
u ð r e G up a k ð ó g
öngu g in e a d il g in ð Tilbo jum it F á i n n u n ó r íK
22
afsláttur
afslátt
Verð áður 898 kr. kg Lamba súpukjöt, hálfur frampartur
Verð áður 2559 kr. kg Lambakótiilettur, kryddaðar
1999 Verð áður 2559 kr. kg
kr. kg
Lambakótilettur
15
12
%ur
%ur
afslátt
afslátt
1999
Verð áður 2280 kr. kg Lambalærissneiðar
15 1999 ill Kolagrrin marine g
%ur
afslátt
Verð áður 2349 kr. kg
kr. kg
Lambalærissneiðar með kolagrillmarinering
1999
15 1999
Lambalærissneiðar með New York marineringu
Lambalærissneiðar með ítalskri marineringu
Ítölsking mariner
rk New Yeroin marin g
kr. kg
kr. kg
Verð áður 2349 kr. kg
kr. kg
Opið virka daga 9-20 Opið um helgar 10-19
afslátt
Verð áður 2349 kr. kg
Opnunartímar í Krónunni á Fitjum Reykjanesbæ
%ur
kr. kg
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl
699
afsláttur
% 2 2 1999
%ur
kr. kg
% 2 2
6
fimmtudagur 12. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR RITSTJÓRNARPISTILL DAGNÝ HULDA ERLENDSDÓTTIR
vf.is
Þegar margir hjálpast að ÚTGEFANDI: AFGREIÐSLA OG RITSTJÓRN: RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRÉTTASTJÓRI: BLAÐAMENN: AUGLÝSINGASTJÓRI: UMBROT OG HÖNNUN: AFGREIÐSLA: PRENTVINNSLA: UPPLAG: DREIFING: DAGLEG STAFRÆN ÚTGÁFA:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001
Oft er sagt að gott sé að búa í litlu samfélagi þegar eitthvað óvænt kemur upp á. Guðlaug Erla Björgvinsdóttir, ung móðir úr Grindavík, eignaðist stúlku síðasta sumar og kom í ljós stuttu eftir fæðinguna að hún var með krabbamein í augum. Mæðgurnar hafa farið nokkrar ferðir til Svíþjóðar í krabbameinsmeðferðir og til allrar hamingju hefur stúlkan náð góðum bata. Líkur er á að hún eigi eftir að hafa fína sjón í framtíðinni. Í Víkurfréttum vikunnar er viðtal við móðurina. Fjölmargir á Suðurnesjum hafa stutt við bakið á þeim mæðgum undanfarnar vikur. Krakkar í sunddeild Grindavíkur syntu maraþonsund og söfnuðu styrkjum og í Sjónvarpi Víkurfrétta í síðustu viku var rætt við Magnús Má Jakobsson, sundþjálfara krakkana. Í máli hans kom fram að það væri styrkur þeirra í Grindavík að þegar eitthvað bjáti á standi þeir saman. Sigvaldi Arnar Lárusson, varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurnesjum stóð fyrir Umhyggjugöngunni í sumar og safnaði fyrir mægðurnar. Í viðtalinu við Guðlaugu kemur fram öll hjálpin sem hún hefur fengið á undanförnum vikum hafi skipt miklu og gangi allt að óskum sér hún jafnvel fram á að þurfa ekki á meiri aðstoð að halda.
þegar samfélagið tekur utan um fólk og hjálpar því yfir erfiða hjalla. Í blaðinu er einnig umfjöllun um Rauða kross búðina í Reykjanesbæ. Þar starfar fjöldi sjálfboðaliða, sér til ánægju og hjálpar öðrum. Þar er vikulega flokkað eitt tonn af fötum og þau ýmist seld í búðinni eða send áfram til Reykjavíkur og til útlanda. Hjá Rauða krossinum í Reykjanesbæ er einnig fataúthlutun þar sem fólk getur valið sér það sem því vanhagar um, eins og rúmföt, handklæði og fatnað. Í máli Halldóru Blöndal, verkefnastjóra hjá Rauða krossinum, kemur fram að fólk komi ekki alltaf sjálfviljugt og biðji um hjálp heldur þurfi stundum að sækja það. Það hikar Halldóra ekki við að gera. Starf Rauða krossins í Reykjanesbæ er dæmi um styrk samfélagsins. Íbúarnir eru sjálfboðaliðar og sýna gott fordæmi og samfélagslega ábyrgð.
Saga Guðlaugar og Ólavíu er gott dæmi um það
Fisktækniskóli Íslands með námskeið um meðferð matvæla í Bláa lóninu:
Kenna gæðameðferð á matvælum
F
isktækniskóli Íslands hélt á dögunum námskeið í samstarfi við Bláa lónið fyrir starfsfólk í eldhúsi. Á námskeiðinu var farið yfir meðferð matvæla, hreinlæti, hitastig og þá var tekið fyrir gæðastjórnunarkerfi. Fisktækniskólinn mun áfram vera með námskeið bæði fyrir fastráðna starfsmenn og einnig verður skólinn með nýliðanámskeið fyrir Bláa lónið. Klemenz Sæmundsson heldur utan um þessi námskeið en hann er verkefnastjóri hjá Fisktækniskóla Íslands. Klemenz starfaði áður við veitingarekstur IGS á Keflavíkurflugvelli en þegar breytingar urðu þar fyrr á þessu ári hóf hann störf hjá Fisktækniskóla Íslands. Þar mun hann halda utan um gæðastjórnunar- og fiskeldisnám skólans en hann er matvæla- og næringarfræðingur að mennt. Einnig er hann í almennri kennslu og er m.a. að kenna rekstrarhagfræði þessa önnina. Fisktækniskóli Íslands er framhaldsskóli sem býður upp á nám í fisktækni sem er tveggja ára nám á framhaldsskólastigi. Þá er skólinn einnig með þriðja árs nám á þremur brautum, þ.e. fiskeldi sem byrjar í janúar næstkomandi, gæðastjórnunarnám og svo Marel-nám í samstarfi við Marel en búnaður frá því fyrirtæki er orðinn mjög tæknivæddur og krefst góðrar þekkingar þeirra sem nota þann búnað hvort sem er í fiskvinnslustöðvum í landi eða um borð í fiskiskipum. Til að geta hafið nám í Marel vinnslutæknir þarfa að hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi. Mat á reynslu og þekkingu úr sjávarútvegi getur einnig gilt sem inntökuskilyrði eins og inn á hinar brautirnar (raunfærnimat). Fisktækniskóli Íslands býður einnig upp á vélstjórnarnám, flökunarnámskeið og einnig nýliðanámskeið fyrir fiskvinnslur út um allt land. Einnig kenna starfsmenn skólans á kjarabundnum fiskvinnslunámskeiðum ásamt því að búa til námskeið eftir þörfum atvinnulífsins hverju sinni. „Við erum einnig mikið í að raunfærnimeta fólk í samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og aðrar símenntunarstöðvar. Það er ótrúlega margir sem koma til okkar sem hafa verið á sjó í 20-30 ár og eru að vakna upp við það að tímarnir eru að breytast og það þarf aukna menntun, alveg sama hvar það er. Við erum að raunfærnimeta
þessa einstaklinga en þeir hafa m.a. áhuga á að koma í gæðastjórnunarnám hjá okkur, í Marel-nám eða fiskeldið,“ segir Klemenz. Hvernig sækir fólk þetta nám hjá skólanum? „Við erum bæði með staðnám og dreifnám. Við leggjum mikið upp úr því að þetta sé nám með vinnu. Ef nemendur komast ekki í tíma hjá okkur þá taka þeir námið í dreifnámi, mæta þegar þeir mögulega geta og nota netið (moodle). Nemendur geta tekið hluta af náminu eða jafnvel allt í dreifnámi. Námið hjá okkur er einstaklingsmiðað þannig að nemendur geta ráðið sínum hraða, sérstaklega í grunnnáminu á fyrstu tveimur árunum. Í þriðja árs náminu þá byrja allir saman og útskrifast saman“. Nemendur Fisktækniskóla Íslands koma frá öllu landinu og nýlega byrjuðu þrír nemKlemenz Sæmundsson fremst til vinstri á námskeiði með starfsfólki Bláa lónsins á dögunum. VF-mynd: Hilmar Bragi
endur sem stunda námið frá Noregi. Þá segir Klemenz að nemendurnir séu á öllum aldri. Eitthvað er um eldri nemendur sem hafa fengið metið nám í „skóla lífsins“ á móts við námskrá skólans í gegnum raunfærnimat. „Hingað koma margir sem telja sig ekki kunna neitt en vita hins vegar mjög mikið þegar á hólminn er komið og hafa aflað gríðarlegrar þekkingar í gegnum tíðina. Það er gaman að taka þátt í því þegar menn ákveða að fara aftur í skóla, fólk sem hefur jafnvel upplifað það að skóli væri ekki eitthvað fyrir það. Flestir finna styrkleika sína og ákveða að nú sé tíminn að bæta við sig menntun,“ segir Klemenz. Klemenz segir Fisktækniskóla Íslands vera í góðu samstarfi við fiskvinnslufyrirtæki um land allt. Skólinn heldur reglulega námskeið
fyrir nýja starfsmenn í fiskvinnslu og einnig fyrir starfsfólk með meiri reynslu. Með námskeiðshaldi fyrir Bláa lónið má segja að Fisktækniskóli Íslands sé að fara út fyrir rammann en Klemenz segir engan mun á því hvort fólk sé að vinna með kjöt eða fisk. Það gildi sömu reglur um meðferð á öllum matvælum. Skólinn ætlar í framhaldi af námskeiðinu í Bláa lóninu að bjóða öðrum fyrirtækjum í matvælavinnslu upp á samskonar námskeið. „Það skiptir engu máli hvort þú ert í fiski, kjöti eða veitingarekstri. Það gilda sömu reglur og lögmál, þar sem hreinlæti og hitastig skipta gríðarlega miklu máli,“ segir Klemenz Sæmundsson, verkefnastjóri hjá Fisktækniskóla Íslands að endingu.
7
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 12. nóvember 2015
-viðtal
pósturu dagnyhulda@vf.is
Fann á sér að eitthvað væri að
Ég er rosa heppin með fjölskylduna mína. Systir mömmu minnar er eiginlega orðin amma Ólavíu og hjálpar okkur mikið
– Mæðgurnar Guðlaug Erla og Ólavía Margrét fæddust báðar með krabbamein í augum.
Ó
lavía Margrét Óladóttir fæddist 30. júlí síðastliðinn. Stuttu eftir fæðingu kom í ljós að hún væri með krabbamein í augum. Móðir hennar, Guðlaug Erla Björgvinsdóttir, fæddist með sams konar krabbamein árið 1996. Slíkt krabbamein hafði ekki þekkst í fjölskyldunni áður en Guðlaug fæddist. Mæðgurnar hafa farið fjórum sinnum til Svíþjóðar til meðferðar við krabbameininu á þeim þremur mánuðum sem liðnir eru frá fæðingu Ólavíu. Guðlaug segir að í byrjun meðgöngunnar hafi enginn hugsað út í það hvort barnið gæti verið með krabbameinið. „Svo fór ég að pæla í þessu þegar ég var komin 20 vikur. Ég fann á mér að eitthvað væri að. Þá kom í ljós að hún var með sama breytta genið og ég sem getur valdið krabbameini í auga. Þá rifjaði systir mömmu minnar upp að þegar ég fæddist var það rætt af mínum læknum að mögulegt væri að börn mín myndu fæðast með sama krabbamein. Ég fékk sjálf að taka ákvörðun um það hvort ég vildi fæða Ólavíu eftir 38 vikur eða ganga með hana fulla meðgöngu,“ segir Guðlaug. Ef Guðlaug hefði gengið með Ólavíu
fulla meðgöngu hefði það getað gerst að meinið hefði verið orðið stærra og valdið meiri skaða. Þó svo að Ólavía hafi verið með breytta genið var ekki víst að hún væri með krabbamein en það fékkst svo staðfest þegar hún var viku gömul. „Það var erfitt að fá þær fréttir en samt eitthvað sem ég bjóst við. Ég var búin að undirbúa mig undir það slæma.“ Mæðgurnar hafa farið fjórum sinnum til Svíþjóðar og hefur batinn verið vonum framar. „Krabbameinið fór úr öðru auganu eftir eina lasermeðferð. Krabbameinið í hinu auganu er búið að minnka mikið en á ekki eftir að hverfa alveg svo hún verður undir eftirliti. Hún sér því með báðum augum og það er líklegt að hún eigi eftir að sjá vel í framtíðinni. Kannski gæti hún þurft gleraugu en það er nú í lagi.“ Eins og áður sagði fæddist Guðlaug sem sama krabbamein fyrir 19 árum og fór þá til London og fékk læknishjálp. Hún missti alla sjón á öðru auga og er með skerta sjón á hinu. Hún segir skertu sjónina þó ekki há sér mikið enda þekki hún ekki annað. „Ég get gert næstum því allt nema að keyra bíl,“ segir hún og bætir við að sumt við um-
önnun Ólavíu litlu geri hún tvisvar sinnum eins og til dæmis að þrífa pelana til að vera alveg viss um það sé þeir séu hreinir. Guðlaug fær góða hjálp frá fjölskyldunni sinni enda í nógu að snúast að fara oft til Reykjavíkur í viðtöl hjá læknum og til Svíþjóðar. „Ég er rosa heppin með fjölskylduna mína. Systir mömmu minnar er eiginlega orðin amma Ólavíu og hjálpar okkur mikið. Svo keyrir frænka mín okkur alltaf til Reykjavíkur og
ætlar með mér í næstu ferðir til Svíþjóðar.“ Töluverður kostnaður hefur fylgt veikindunum og hafa margir stutt við bakið á þeim mæðgum. Til dæmis syntu börn í sunddeild Grindavíkur maraþonsund á dögunum og söfnuðu styrkjum. Guðlaug kveðst afar þakklát öllum þeim sem hafa stutt þær. „Ég er á góðum stað núna og styrkirnir hafa komið sér vel. Ég er ótrúlega þakklát fyrir alla hjálpina. Ég veit
ekki hvernig framhaldið verður en þykir líklegt að ég þurfi ekki á meiri aðstoð að halda.“ Ólavía er mikill gleðigjafi og hefur að sögn Guðlaugar verið mjög hress þrátt fyrir lasermeðferðir og krabbameinslyf. „Stundum þegar hún er í lyfjagjöf hlær hún. Hún hefur aðeins einu sinni orðið alvarlega veik og það var eftir blóðgjöf. Það er þó ekkert miðað við það sem gæti verið að gerast svo hún er mjög heppin.“
ERTU EFNI Í NÝBAKAÐAN VERSLUNARSTJÓRA? Við viljum ráða samviskusama og skipulagða manneskju sem á auðvelt með að hvetja aðra til góðra verka á líflegum og skemmtilegum vinnustað. Verslunarstjóri hefur umsjón með daglegum rekstri verslunar Domino’s á Hafnargötu. Ef þú ert 25 ára eða eldri, hefur leiðtogahæfileika, býrð yfir góðri tölvukunnáttu, talar ensku, hefur ökuréttindi og ert klár í að vinna sjálfstætt og í hóp skaltu endilega senda okkur ferilskrá þína og aðrar upplýsingar á petra@dominos.is. Umsóknarfrestur er til 25. nóvember. Öllum umsóknum verður svarað og fullum trúnaði heitið.
8
fimmtudagur 12. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Jólaúthlutun Velferðasjóðs Suðurnesja
Opið verður fyrir umsóknir hjá Velferðasjóði Suðurnesja og Hjálparstarf kirkjunnar í Keflavíkurkirkju 24. - 26. nóvember,1. - 3. desember og 8. desember. Opnunartími er frá kl. 09:00-12:00. Þeir sem hafa fengið greitt inn á kort (blátt Arionbankakort) geta sótt um jólaaðstoðina rafrænt á www.help.is. Allir þeir sem eru undir viðmiðunarmörkum eiga rétt á jólaaðstoð hjón, einstkalingar og barnafólk. Athugið ekki verður tekið við umsóknum eftir 8.12. Afgreiðsla korta fer svo fram 17. desember 2015 milli kl. 09:00 og 12:00.
ATVINNA Óskum eftir starfsmanni, viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, Íslenska skilyrði Starfið felst í afgreiðslu í verslun, lager og útkeyrslu. Upplýsingar veitir Smári á netfang smari@afangar.is eða í síma 691-2000.
-viðtal
pósturu vf@vf.is
Ung söngkona í úrslitum Jólastjörnunnar Sesselja Ósk úr Myllubakkaskóla æfir sig í karaókí-klefanum í Hljómahöll
S
esselja Ósk Stefánsdóttir, nemandi í 4. bekk Myllubakkaskóla, er komin í úrslit Söngkeppninnar Jólastjarnan 2015. Keppnin er fyrir börn 16 og yngri og sendu um 300 börn inn myndbönd í keppnina í ár. Tólf komust í úrslit og er Sesselja yngst þeirra. Þau koma svo öll fram á Jólatónleikum Björgvins Halldórssonar þann 12. desember í Laugardalshöll. Sesselja er dóttir Kristínar Óskar Wium og Stefáns Más Guðmundssonar. Kristín sendi inn myndband af Sesselju að syngja lagið Four Five Seconds. Kristín segir Sesselju mjög lagvissa og með þroskaða rödd. Kristín vinnur í Hljómahöll og kemur Sesselja oft í heimsókn í vinnuna til mömmu sinnar og tekur lagið í karaókí-klefanum. „Hún fer alltaf beint inn í klefann og fær upptöku af söngnum sínum svo senda með tölvupósti og getur þá skoðað myndböndin sjálf. Þegar hún er að æfa ný lög þá gefst hún aldrei upp á að ná þeim fullkomlega. Þetta eru mjög góðar græjur í Hljómahöll og það hefur alveg örugglega haft eitthvað með það að segja að hún komst í úrslit.“ Fjölskyldan fékk pínu sjokk þegar ljóst var að Sesselja hefði komist í úrslit. „Hún hefur lítið sungið opinber-
Sesselja Ósk með mömmu sinni Kristínu Ósk
lega áður, fyrir utan tvö skipti á jólaskemmtunum í skólanum. Það var samt ekkert mál fyrir hana að syngja fyrir framan dómarana og ég hef reyndar aldrei heyrt hana syngja eins vel og þá. Það féllu nokkur tár meðal dómaranna.“ Að sögn Kristínar byrjaði Sesselja að syngja áður en hún lærði að tala og skreið að hljómflutningstækjum heimilisins og kveikti á og byrjaði svo að dilla sér og syngja með. Sesselja hefur ekki lært söng eða verið í kór, heldur æft sig heima og oft með systkinum sínum, þeim Aðalbjörgu Ósk, 7 ára Davíð Mána sem er 15 ára.
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
ÍBÚAFUNDUR Opinn fundur um væntanlega íbúakosningu verður haldinn í Stapa fimmtudaginn 19. nóvember 2015 kl. 20:00. Á fundinum munu báðir aðilar, þ.e. Reykjanesbær og íbúar sem eru mótfallnir deiliskipulagsbreytingum í Helguvík, kynna sín sjónarmið. Að því loknu verður opnað fyrir almennar umræður og fyrirspurnir úr sal. Í pallborði verða fulltrúar allra framboðslista sem sæti eiga í bæjarstjórn Reykjanesbæjar ásamt fulltrúum íbúa sem eru mótfallnir deiliskipulagsbreytingunni. Fundarstjóri verður Eysteinn Eyjólfsson formaður umhverfis- og skipulagsráðs. Íbúar geta kynnt sér sjónarmiðin á vefnum www.ibuakosning.is
Fullt út úr dyrum í Auðarstofu F
– handavinnusýning og vöfflukaffi vel sótt í Garðinum
élagsstarfið Auður í Garði, sem er félagsstarf 60 ára og eldri í Sveitarfélaginu Garði, stóð fyrir handavinnusýningu og flóamarkaði um nýliðna helgi.
+ www.vf.is
83% LESTUR
Sesselja á ekki langt að sækja sönghæfileikana því mamma hennar er lærð söngkona og lék eitt aðalhlutverkanna í Bugsy Malone þegar hún var 14 ára. Síðasta laugardag söng Sesselja fyrir fyrir framan dómara Jólastjörnunnar og upptökuvélar og gekk vel eins og áður sagði. „Við verðum samt alltaf að hafa í huga að hún er bara níu ára og það var stórsigur fyrir hana að komast í úrslit í keppninni. Aðalatriðið er að hún njóti þess að vera með.“ Næstu þrjá fimmtudaga verða þættirnir Jólastjarna Björgvins Halldórssonar á Stöð 2 og verður sá fyrsti í kvöld, fimmtudagskvöld.
Mæting var framar vonum og fullt út úr dyrum á meðan sýningin var opin. Þá var einnig selt kaffi og rjómavöfflur. Meðfylgjandi myndir voru teknar í félagsstarfinu.
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 12. nóvember 2015
Nýta hvern þráð
9
-Suðurnesjamenn gefa eitt tonn af fötum á viku í gáma Rauða krossins.
Halldóra Blöndal, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum.
„Þetta er eiginlega falinn fjársjóður hérna hjá okkur,“ segir Halldóra Blöndal, verkefnastjóri um verslun Rauða krossins við Smiðjuvelli í Reykjanesbæ. „Við erum búin að stækka búðina mikið að undanförnu enda nóg af fötum til að selja því Suðurnesjamenn eru mjög duglegir að koma með föt til okkar. Við erum alltaf að bæta við úrvalið hjá okkur.“ Fyrir utan Rauða krossinn við Smiðjuvelli eru fatagámar og eru þeir fljótir að fyllast. Í hverri viku kemur um eitt tonn af fötum í gámana. Hluti fatanna er seldur í búðinni, hluti fer í fataúthlutun hjá Rauða krossinum og annað er sent í burtu og ýmist selt í verslunum Rauða krossins í Reykjavík eða sent til útlanda. Fötin sem send eru til útlanda fara ýmist til bágstaddra eða eru seld til vefnaðarkaupmanna. Að sögn Halldóru er öll vefnaðarvara sem gefin er til Rauða krossins nýtt. „Það fer ekkert til spillis. Við getum jafnvel nýtt gamlar nærbuxur, sokka og rifin lök,“ segir hún og hlær. Fá oft ný tískuföt Fólk gefur mikið af nýjum fötum til Rauða krossins og segir Hall-
dóra hluta ástæðunnar vera þá að Suðurnesjamenn séu duglegir að fara til útlanda að versla. „Stundum fáum við ný föt sem eru enn með verðmiðanum á. Svo fáum við til okkar óskilamuni af flugvellinum og það eru uppáhalds dagarnir mínir. Það eru þá flíkur sem hafa verið þar í marga mánuði og enginn hefur vitjað. Það eru alltaf mjög fallegar flíkur, oft merkjavara og fallegar slæður. Reyndar gerðist það einu sinni að slæðu var vitjað í óskilamunum eftir að hún kom til okkar. Þetta hafði þá verið slæða sem upphaflegi eigandinn hafði keypt á 170.000 krónur. Hún var því miður ekki hjá okkur. Kannski vorum við búin að selja við hana á 500 krónur, það er erfitt að segja.“ Halldóra segir fólk stundum feimið við að versla í Rauða kross búð í fyrsta sinn. Það sé þó engin ástæða til þess enda séu allir velkomnir. „Innflytjendur hafa alltaf verið duglegir að koma til okkar en núna að undanförnu hafa fleiri Íslendingar bæst í hópinn. Margar konur segja okkur að þetta sér uppáhalds búðin þeirra.“ Verðinu er stillt í hóf og kosta flíkurnar á bilinu 100 til 2.000 krónur. Halldóra segir því alveg kjörið fyrir fólk með kaupæði
að versla hjá Rauða kross búðinni. Oft gerist það líka að fólk kaupi sér föt í búðinni og skili svo þangað aftur þegar það er hætt að nota þau. Sækir fólk í fataúthlutun Fataúthlutun er til fólks á miðvikudögum og fær fólk þá að velja sér þau föt sem það vantar og er sú deild á afmörkuðum stað í húsi Rauða krossins, aðskilin frá búðinni. Þar fær fólk rúmföt, handklæði, hlý útiföt, lesgleraugu og annað sem því vanhagar um. „Fyrst voru það aðallega útlendingar sem komu í fataúthlutun til okkar en núna koma Íslendingar líka. Við viljum endilega hjálpa sem flestum. Starfið hérna snýst um það. Ég er búin að vinna hérna í eitt ár og held að ég sé orðin svolítið næm fyrir högum fólks. Stundum sé ég fólk í búðinni og býð því að koma í fataúthlutunina. Eftir því sem ég er lengur hérna á ég auðveldara með að finna fólkið sem þarf á hjálp að halda. Fólk kemur ekki alltaf sjálfviljugt og biður um hjálp, heldur þarf stundum að sækja það.“ Verslun Rauða krossins við Smiðjuvelli er opin á miðvikudögum og fimmtudögum frá klukkan 13 til 17.
Suðurnesjamaður vikunnar
Borðar marsipanbrauð og verður danskur
Gleðin er alltaf í fyrirrúmi hjá sjálfboðaliðum Rauða kross búðarinnar. Á myndinni frá vinstri eru Sigrún Ásgeirsdóttir, frá Íslandi, Rogelia Helena, frá Portúgal, Halldóra Blöndal frá Íslandi, Mrije Nlka-Rasha, frá Albaníu, María Shishigina-Pálsson, frá Jakutia í Síberíu og Irina Nam frá Kirgizistan. VF-mynd/dagnyhulda.
Suðurnesjamaður vikunnar er Tómas Knútsson hjá Bláa hernum. Samtökin hafa á undanförnum árum hreinsað 1200 tonn af rusli meðfram strandlengju landsins og vakið athygli á rusli í sjónum. Tómas segir starf sitt með Bláa hernum vera ástríðu frekar en áhugamál. Fullt nafn: Tómas Júlian Höiriis Knútsson Aldur: 58 ára. Fjölskylda: Sambýliskonan Magga Hrönn, tvær dætur, þrjár stjúpdætur og sjö afabörn. Áhugamál: Ég á nokkra gamla bíla og dúlla mér í kringum þá. Þó svo að ég geri mikið af því að týna rusl þá er það frekar ástríða en áhugamál.
Uppáhaldsnammi: Ég er mikill nammigrís og Anton Berg marsipanbrauð er í sérstöku uppáhaldi enda er ég hálfur Dani. Alltaf þegar ég kem til Danmerkur fæ ég mér strax danska pylsu, drykkinn Cocio og svo Anton Berg marsipanbrauð í eftirrétt. Þá er ég tilbúinn í slaginn í Danmörku og eiginlega orðinn alveg danskur. Uppáhaldsbækur: Gíslasaga Súrssonar og Íslandsklukkan.
Leyndur hæfileiki: Ég hef sennilega ekki séð hann enn.
Gæludýr: Hundarnir Kolla og Tinna sem eru mæðgur.
Fyrsta bernskuminningin: Það var þegar ég var fjögurra ára í Hrauntúni og vinur pabba gaf mér trébíl. Þessi minning er alveg ljóslifandi.
Fallegasta náttúruperla á Suðurnesjum: Ósabotnar og Sandvík. Þangað fer ég reglulega og tíni rusl því ég vil hafa hreint og fínt þar.
Nánari upplýsingar inná www.lk.is
3Ver0ðlæ0kkkur.n 100%
Roð- og beinlaus
Ungnautahakk
1.298 kr. kg
1.598 kr. kg
1.498 kr. kg
Norðanfiskur Ýsubitar Roð- og beinlausir, frosnir
Íslandsnaut Ungnautahakk Verð áður 1898 kr. kg
Ali Grísalundir Ferskar
1.895 kr. kg
698
598
Kjörfugl Kjúklingabringur Ferskar
Kjörfugl Kjúklingur Ferskur, heill
Ali Grísabógur Ferskur
kr. kg
kr. kg
BÓNU
VERÐS
2.998 kr. 2 kg
1.598 kr. 900 g
798 kr. 250 g
Mackintosh Konfekt, 2 kg
Mackintosh Konfekt, 900 g
1.998 kr. 630 g
Nóa Pralín molar Konfektmolar með mjúkri fyllingu, 630 g
Verð í þessari auglýsingu gilda til og með 15. nóvember a.m.k.
Hamlet Konfekt 250 g
198 kr. 100 g
Toblerone, 100 g
Stærri pakkning
1,2 kg
129 kr. 1 kg
kr. 1 kg
95
398
Euro Shopper Sykur, 1 kg
Euro Shopper Hveiti, 1 kg
Bónus Púðursykur 1200 g
kr. 1,2 kg
BAKAÐU MEÐ BÓNUS!
298 kr. 300 g
Heima Suðusúkkulaði 300 g
Ný uppskera
1,36 kg
359 kr. 400 g
Bónus Piparkökur 400 g
189 kr. 500 g
Heima Smjörlíki 500 g
Ný uppskera
2,3 kg
459 kr. pk.
759
Smáepli 1,36 kg
Robin Klementínur Ný uppskera, 2,3 kg
kr. 2,3 kg
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00
12
fimmtudagur 12. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-viðtal
Hjálmar Árnason er einn af duglegustu stangveiðimönnum landsins. Nú í haust veiddi hann 500. laxinn sinn en það er ekki nóg með að hann sé með mikla veiðidellu. Hann gerir meira:
SKRÁIR HVERN EINASTA LAX Gleymast illa þeir sem sleppa. Að skrá veidda fiska gefur mikla ánægju.
E
inni bestu laxveiðitíð er ný lokið og einn af rúmlega sjöþúsund löxum ársins var tímamótafiskur hjá Hjálmari Árnasyni, skólameistara og stangveiðimanni. Hann var fimmhundraðasti laxinn sem hann veiðir og hann náðist í Ytri-Rangá. Hjálmar er einn af þessum mögnuðu veiðimönnum sem lætur sér ekki duga að veiða heldur skráir alla fiska sem hann veiðir og hefur gert frá því sá fyrsti kom á land. „Eftirminnilegasti laxinn er auðvitað sá sem ég veiddi síðast. Með skráningunni hef ég hins vegar getað rifjað reglulega upp viðureignirnar og því má segja að hver lax hafi verið veiddur margsinnis, a.m.k. veitt manni margfalda ánægju. Nokkrir hafa verið erfiðari en aðrir. Þannig náðist einn 91 sm í Kvernu – hliðará í Skógá – nú í haust. Tók í fremur litlum hyl og hægum straumi. Glíman með kengbogna stöng allan tímann stóð í tvær klukkustundir þar sem risinn rauk tvisvar upp úr hylnum og hamaðist á afar grunnu vatni. Ef ekki hefði komið til snilldarlöndun, Magnúsar vinar míns, hefði höfðinginn sloppið.“ Hjálmar segir að ótrúlegt en satt þá gleymist þeir fiskar illa sem sleppa. „Maður man allt of vel þessa sem sluppu. Fyrsti laxinn er líka eftirminnilegur sem og sá númer 500. Ánægjan var síst minni á þeim nýjasta. Veiðidellan er einfaldlega frábær. Hvergi hleður maður batteríin betur og hvílist jafn vel sem í veiðiferð þó maður komi eitthvað slæptur heim.“ Hjálmar veiddi fyrsta flugulaxinn á Green Butt
H
Félagsskapurinn skiptir miklu máli „Það er erfitt er að velja uppáhaldsána. Í raun er það sú á sem ég veiði í hverju sinni. Eftirvæntingin og spennan er alltaf jafn mikil þegar maður setur græjurnar saman í upphafi veiðiferðar. Þá skiptir gífurlega miklu máli að vera í góðum félagsskap. Hef verið svo lánsamur að vera nánast alltaf með frábærum félögum. Reyndar held ég að á meðan menn eru við veiðiá þá verða þeir hluti af umhverfinu og veiðimenn – flestir – hugsa eins: Vilja lesa ána, spá í hvar fiskur liggi, líklegir tökustaðir og finna rétta agnið.Ekki síður er gaman að finna hvernig alvöru veiðimenn eru fúsir að deila reynslu sinni og þekkingu – benda á hvar veiðivon sé o.s.frv. Það er mjög gaman að upplifa slíkt á bökkunum.“ Vitlaus fiskur í háfinum Ég hef annars haldið mestri tryggð við Flóku í Borgarfirði og Laxá í Leir. Í þessum ám höfum við veitt í mörg herrans ár og alltaf upplifað ný ævintýri. Held að Miðfellsfljótið í Laxá í Leir sé flottasti veiðihylur í heimi enda óteljandi ævintýri orðið þar. Affallið hefur komið skemmtilega á óvart og þá hefur Skógá alltaf verið mér einkar eftirlát. Frægasta sagan þaðan er þegar við félagarnir lentum í miklu flóði með ófrýnilega litaðri Skógá. Fiskurinn þjappaði sér við ármótin að Kvernu. Óli skóli (Arnbjörnsson) var búinn að setja í marga fiska sem tóku grannt og losnuðu. Hann setur svo í enn einn og biður Dodda Matt
að taka kvikindið í háfinn. Doddi skellir háfinum út í og rífur hann upp með myndarlegum fiski. Það var bara vitlaus fiskur því Óli var enn með kengbogna stöngina. Þá hættum við veiði þann daginn. Svona má endalaust telja upp um hverja á hvern veiðistað. Þetta er bara mitt sport. Enn titra ég alltaf í hnjánum eftir að fyrsta laxi sumarsins sem hefur verið landað (gjarnan í Flóku). Sennilega má kalla þetta ást á veiðigyðjunni,“ segir Hjálmar.
Ólafur Jón Arnbjörnsson fær hjálp hjá Dodda Matt við löndun sem háfaði annan lax en þann sem Óli var með á.
Fyrsti flugulaxinn „kvið-tekinn“
jálmar fékk fyrsta laxinn, veiddan á flugu í áni Flóku en þar hefur kappinn veitt árlega í tæp 30 ár - stundum tvisvar á ári. Svona lýsir Hjálmar Flóku: „Einn af gjöfulli stöðum þar var lengi Formaður. Ólgaði gjarnan af stökkvandi fiskum. Kom þar með Ingvari, syni mínum. Hafði áður fengið eina flugtöku í Rangi en misst þann fisk eftir stutta en snarpa viðureign. Merkilegt hvað maður man vel þá sem sleppa. Setti Green Butt nr. 12 undir og kastaði efst í Formann. Lét strauminn bera flugu og línu og strax fiskur á. Flugulax sem lét dólgslega en varð að játa sig sigraðan eftir langa viðureign. Þetta var reyndar ekki neitt til að stæra sig af því flugufjandinn var á kafi í kviðnum á fyrsta flugulaxinum.
Öllu glæsilegri var Maríulax sonarins, Ingvars Hjálmarssonar. Gerðist í Flóku, nánar tiltekið í Neðstahyl í efra gljúfrinu. Pabbinn lýsir þessu svona: „Ingvar var ekki nema 11 ára gamall. Pabbi hans hafði skellt honum á kastnámsekið um vorið og hnýtinganámskeið um veturinn. Pabbinn sýndi honum hvar hann ætti að byrja efst í strengnum og fikra sig rólega niður hann. Á meðann ætlaði sá gamli að kíkja hvernig væri umhorfs efst í gljúfrinu. Á leið til baka blasti við ógleymanleg sjón. Við gljúfuropið stóð drengurinn með kengbogna stöng! Karlinn
hljóp af stað allt hvað af tók, datt á leiðinni, öslaði yfir ána og kom móður og másandi að veiðimanninum með þessum orðum: „Rólegur, Ingvar minn, rólegur.“ Ég man enn undrunarsvipinn á drengnum þegar hann leit á æstan pabba sinn með þessum orðum: „Ég er rólegur pabbi.“ Þrátt fyrir æstan föður landaði strákurinn fimm punda fiski. Þetta var Maríulax Ingvars veiddur á Rauða Frances nr. 12 með gullkrók. Hnýtt af Ingvari sjálfum. Geri aðrir betur. Þess má geta að Rauð Frances á gullkrók nr. 12 er sú fluga sem ég nota langmest enda gjöful með afbrigðum.
Maríulax Ingvars veiddur á Rauða Frances nr. 12 með gullkrók
Nú til dags veiði ég eingöngu á flugu. Hef samt ekkert á móti maðki, spún eða devon. Mest er það fyrir leti sem ég held mig núna við fluguna eingöngu. Nenni ekki að vera með öll vopnin á lofti. Flugan er einföldust, hreinlegust og ekkert síður gjöful en hinar beiturnar. Menn eiga bara að veiða á það sem leyfilegt er og það sem þeim líður vel með“. En þetta „rugl“ að skrá alla fiska sem maður veiðir? „Að skrá veidda fiska hefur gefið manni mikla ánægju. Reglulega kíkir maður á skýrsluna og rifjar þá upp hverja viðureign. Þannig má segja að veiðiskýrslan láti mann njóta hvers fiskjar oftar en einu sinni“.
13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 12. nóvember 2015
pósturu pket@vf.is Hjálmar með 500. laxinn og kampavínið er klárt.
500. laxinum fagnað með kampavíni
N
úna í október náðist svo 500. laxinn á land. Var jafn spennandi og skemmtilegt eins og þegar þeim fyrsta var landað. Hef skrá yfir alla 500 laxana, hvar veiddir, á hvað og með hverjum. Tímamótafiskurinn fékkst í Ytri-Rangá við útfallið á veiðistað nr. 17A. Hafði með mér kampavín og hef oft losað tappa af minna tilefni. Læt fylgja mynd af glöðum veiðimanni, dauðum laxi og fersku kampavíni. Til að undirstrika lukkuna setti Ólafur Jón í fisk og landaði á sama stað skömmu síðar undir regnboganum. Vertíð ársins lauk með stæl og biðin eftir næstu þegar byrjuð.
Hjálmar í stuði í Laxá í Leir.
Fyrsti laxinn ofan við Barnafossa „Ég var orðinn 36 ára gamall þegar Maríulaxinn koma á land, þökk sé miklum, norðlenskum veiðimanni, Stefáni Sigurðssyni. Þetta var í Djúpá, skammt ofan Barnafossa,“ segir Hjálmar þegar hann rifjar upp fyrsta laxinn sem hann veiddi: „Tvisvar hafi ég farið með tengdapabba og mágum mínum í laxveiði án árangurs. Fann meira að segja fyrir svekkelsi yfir fiskleysinu og komst að þeirri niðurstöðu að þetta ætti ekki fyrir mér að liggja. Við Valgerður fórum norður á Akureyri í heimsókn til skólasystur hennar. Þekkti gestgjafana sjálfur lítið. Húsbóndinn spyr mig fljótlega eftir komuna hvort ég sé veiðimaður. Segi raunir mínar og hafi í raun hætt laxveiði áður en ég byrjaði þær. „Það var leitt,“ svarar hann. „Ég ætlaði nefnilega að bjóða þér í laxveiði.“ Ekki þurfti nú meiri ögrun. Við fórum í Djúpá, fallega, litla á sem rennur úr Ljósavatni út í Skjálfandafljót við Barnafossa. Stefán Sigurðsson heitir sá
er dró mig í þessa örlagaríku ferð. Hann er einn mesti veiðimaður og náttúrbarn sem ég hef kynnst og lærði mikið af honum. Þarna þræddi hann maðk á öngul, festi flot á og sagði mér að dunda við lygnan hyl í góðan tíma. Skrapp sjálfur ofar í ána. Ekki hafði ég verið lengi þegar flotið byrjaði að kippast niður reglulega og fyrr en varði reyndist fiskur á. Hélt að hjartað ætlaði út út líkama mínum – svo mikill var spenningurinn um það hvort hann næðist á land. Vissi í raun ekki hvernig maður ætti að bera sig að. Nema Stebbi hafði sagt mér að halda stönginni boginni ef fiskur kæmi á. „Eftir langa og streitufulla mæðu landaði ég Maríulaxi mínum – báðir gjörsamlega búnir á því – fiskur og veiðimaður. Lesendur geta rétt ímyndað sér stolta veiðimanninn þegar Stebbi, Mentorinn, kom nokkru síðar að kanna stöðuna. Á milli þúfna lá þessi líka myndarlegi 6 pundari. Síðan á Djúpá sinn sess í hjarta mínu“.
Sjö laxar á bakkanum og hjónin ánægð.
Hjálmar landaði þessum glæsilega 15 pundara í Skógá og auðvitað á rauðan Frances nr.12..
Félagsskapurinn er stórt atriði í veiði. Hér er Hjálmar með Konráð Lúðvíkssyni og Einari Jóni Pálssyni.
14
fimmtudagur 12. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Hugmyndasamkeppni um íbúðabyggðina á Ásbrú:
Skapa nýja ímynd fyrir íbúðasvæði Ásabyggðar
F
élagið Ásabyggð ehf, sem áður hét Háskólavellir, efndi til hugmyndasamkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um breytt skipulag og nýtt heildaryfirbragð byggðar og bygginga á íbúðasvæði félagsins að Ásbrú í Reykjanesbæ. Íbúðasvæðið á Ásbrú hefur hlotið nafnið Ásabyggð. Í keppnislýsingu sagði að meginmarkmið keppninnar er að skapa nýja ímynd fyrir íbúðasvæðið sem byggir á einföldum en hugvitsamlegum aðgerðum sem beita má í skrefum til að ná settu marki. Ímyndin og yfirbragðið þarf að byggja á hugmyndafræði sem tekur á m.a. skipulagi svæðisins, umhverfis- og búsetugæðum, mannlífi, útliti og litavali bygginga, gróðri og skjólmyndun, merkingum, samgönguásum og hverju því sem þátttakendur telja að geti stutt við þá ímynd sem leitast er eftir.
-viðtal
pósturu hilmar@vf.is Vinningstillagan um íbúðabyggðina á Ásbrú.
Í keppnina bárust sex tillögur og voru þrjár þeirra verðlaunaðar. Fyrstu verðlaun voru 1800 þúsund krónur, önnur verðlaun voru 900 þúsund krónur og tillagan í þriðja sæti hlaut 500 þúsund krónur. Tillagan sem fór með sigur af hólmi var unnin af A2F arkitektum, Baark og Landmótun. Dómnefnd var sammála um að tillaga þeirra gerði mest til að skapa sterka heildarmynd og ímynd fyrir svæðið með aðgerðum á bæði stórum og smáum skala. Hugmynd um grænt belti sem bindi svæðið saman og þjónustukjarna í miðju þess er sterk og eins hugmynd um þéttari byggð. Tillagan hefði þó verið bættari ef aðgerðum í smærri skala sem og útliti og litavali bygginga hefði verið gefinn meiri gaumur. Tillögurnar eru til sýnis í aðalsal Keilis á Ásbrú.
I
ngvi Jónasson er framkvæmdastjóri Ásabyggðar. Víkurfréttir ræddu við hann um hugmyndasamkeppnina og hvernig unnið verði með þær tillögur sem bárust. Af hverju var ákveðið að ráðast í þessa samkeppni? „Okkur langaði að byrja skemmtilega vegferð og reyna að koma af stað ákveðinni endurnýjun og breytingu á umhverfi og húsum. Draumurinn okkar er að ráðast í framkvæmdir á næstunni og næstu árum og umbreyta hverfinu þannig að við breytum um lit og lögum nánasta umhverfi og þess vegna ákváðum við að fara og fá aðstoð í svona samkeppni og fá ferskar og góðar hugmyndir“. Svæðið hefur verið frekar einsleitt. „Það er frekar einsleitt og ekki nægilega mikið verið gert til að breyta lit og laga umhverfi. Þetta eru fínar byggingar og góð hús en þau eru öll frekar svipuð og þá skiptir máli að búa til nýja ímynd“. Hvað kom út úr þessari samkeppni ykkar? „Það komu mjög skemmtilegar tillögur. Allar sex tillögurnar hafa eitthvað fram að færa. Þær eru að tala um tengingar inni á svæðinu,
Frá afhendingu verðlauna fyrir bestu hugmyndirnar. VF-myndir: Hilmar Bragi
breytingar á húsum varðandi liti og umhverfi. Ég held að þetta séu fínar tillögur og verður gaman að skoða þær núna í framhaldinu“. Hvernig ætlið þið að vinna með sigurtillöguna? „Núna þurfum við að skoða og meta næstu skref. Vonandi náum við að útfæra þetta og setja eitthvað í framkvæmd á næstunni. Okkur langar að fara í að breyta og bæta. Þá vonumst við til að það verði meiri fókus á þetta svæði innan sveitarfélagsins. Það er okkar draumur. Það eru miklir möguleikar hérna. Hér eru miklar byggingar og á svæðinu búa nú um 2000 manns, þannig að þetta svæði er
HÚSASMIÐJAN LEITAR
„Á næstu vikum verður lögð áhersla á það hjá Landsbankanum að tryggja sem best hagsmuni starfsfólks svo að þessar breytingar gangi sem best fyrir alla sem að málinu koma,“ segir Einar Hannesson, útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ.
Húsasmiðjan vill ráða starfsmann í timburafgreiðslu fyrirtækisins í Reykjanesbæ Um er að ræða fullt starf og þarf viðkomandi að hefja störf sem fyrst
Hæfniskröfur • Mjög góð alhliða þekking á timbri og öðru byggingaefni • Lyftararéttindi kostur • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð • Samskiptahæfni • Íslenskukunnátta (tala og skrifa) • Æskilegur aldur 25 + Umsóknir berist fyrir 20 nóvember nk. Umsóknir berist til einarr@husa.is Öllum umsóknum verður svarað.
með stærri kjörnum og það eru mikil tækifæri“. Ingvi á ekki von á að Ásabyggð ehf. ráðist í nýbyggingar á svæðinu á næstunni en Ásbrú sé framtíðarbyggingaland Reykjanesbæjar og það verði öllum til góða þegar ráðist verði í að byggja nýtt á svæðinu.
Tryggja hagsmuni starfsfólks
AÐ ÖFLUGUM LIÐSMANNI
Ábyrgðarsvið • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini • Tilboðsgerð og leiðbeiningar við almennar byggingaframkvæmdir • Önnur tilfallandi störf
Ingvi Jónasson er framkvæmdastjóri Ásabyggðar.
Húsasmiðjan leggur metnað sinn í að veita fyrsta flokks þjónustu og hafa gott aðgengi að vörum sínum og starfsfólki. Það sem einkennir starfsmenn Húsasmiðjunnar eru eftirfarandi gildi:
Metnaður Þjónustulund Sérþekking
Á dögunum var tilkynnt að Arion banki hefði hlotið hæstu einkunn í útboði um rekstur fjármálaþjónustu í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Í síðustu viku barst Landsbankanum svo formleg uppsögn á núverandi rekstrarleyfissamningi og er útlit fyrir að Landsbankinn hætti rekstri í flugstöðinni eigi síðar en 30. apríl 2016. Landsbankinn hefur rekið útibú í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli frá opnun hennar og hafði fullan hug á að halda þeim rekstri áfram. Samkvæmt upplýsingum frá bankanum var lögð mikil vinna í tilboðsgerðina og er það mat bankans að tilboð hans hafi verið afar hagstætt. Í útibúi Landsbankans í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli starfa 25 manns, þar af eru 12 fastráðnir. Að sögn Einars er þetta öflugur hópur og margt starfsfólkið hefur ára og áratugalanga reynslu af bankaþjónustu. „Við förum reglulega yfir stöðuna með starfsfólki okkar. Starfsfólkinu í Leifsstöð hefur ekki verið sagt upp störfum og engin ákvörðun hefur verið tekin um framhald mála.“
VILLIBRÁÐIN
VINSÆL Í LAVA
XVillibráðarkvöld X er einn af hápunktum ársins hjá veitingastaðnum Lava í Bláa lóninu. Eins og undanfarin ár rann munnvatnið hjá gestum staðarins en nokkur hundruð gesta nutu magnaðra villibráðarveitinga Lava um síðustu helgi. Hreindýr, lundi, lax, önd og gæs er hluti af villibráðinni sem er borin fram á margvíslegan máta að hætti matrreiðslumeistara Lava. VF smellti af nokkrum myndum á villibráðarkvöldinu um næst síðustu helgi.
ÆTTI DOMINO’S AÐ PANTA ÞIG? Við hjá Domino’s í Keflavík viljum bæta við okkur starfsfólki í fullt starf. Ef þú ert 18 ára eða eldri, hefur ökuréttindi og langar að vinna á stórskemmtilegum vinnustað, þá ættum við að spjalla saman. Áhugasamir geta sótt um starfið á dominos.is og er umsóknarfrestur til 25. nóvember.
16
fimmtudagur 12. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
Leikfélag Keflavíkur með barnaleikrit í Frumleikhúsinu:
RAUÐHETTA FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA L
ORLOFSHÚS Á SPÁNI Starfsmannafélag Suðurnesja auglýsir orlofshús félagsins á Spáni laust til umsóknar fyrir páska. Einnig auglýsir félagið Spánarhús laust til umsóknar fyrir sumar.
eikfélag Keflavíkur frumsýndi um síðustu helgi barnaleikritið Rauðhettu í í leikstjórn Víkings Kristjánssonar leikara. Verkið er barnaleikrit fyrir alla fjölskylduna, en Víkingur segir að verkið hafi verið stækkað og inní það bætt fjölmörgum nýjum persónum til að krydda söguna og gera hana skemmtilegri. Auk þess hafa verið samin nokkur skemmtileg lög sem setja skemmtilegan svip. Þetta er í annað skipti sem Leikfélag Kefla-
víkur setur upp leikritið um hana Rauðhettu. Uppsetning Rauðhettu núna fær góðar viðtökur áhorfenda sem hafa tjáð sig um verkið á fésbókinni og mæla með Rauðhettu fyrir alla fjölskylduna. Næstu sýningar á Rauðhettu verða í Frumleikhúsinu í Keflavík laugardaginn 14. nóvember kl. 17. Tvær sýningar verða á sunnudag kl. 14 og 17 og svo verður aftur sýnt sunnudaginn 22. nóvember kl. 14 og 17. Nánari upplýsingar um Rauðhettu má nálgast á www.lk.is
PÁSKAÚTHLUTUN 2016 Orlofshús á La Marina á Spáni. 22. mars til 5. apríl. Umsóknarfrestur til 7. desember
SUMARÚTHLUTUN 2016 Orlofshús á La Marina á Spáni. Sumarúthlutun er frá 15. maí til 30. sept. (2 vikur hver úthlutun) Umsóknarfrestur til 7. desember
Hægt er að sækja um á skrifstofu félagsins eða á vefnum www.stfs.is. Orlofsnefnd STFS
KVENNAVELDIÐ
Afmælistilboð 11.11.2015 20% afsláttur af öllum stækkunum
Ný sýning í Listasafni Reykjanesbæjar
Gildir frá 11. nóvember til 30. nóvember
Jólatilboð - Myndataka, 20 jólakort og þrjár myndir í stærðinni 13 x 18 cm. Fjölbreytt úrval af jólakortum, þú velur. Glæsilegar jólagjafir Verð: 22.900 kr
Jólamyndatökur - Okkar vinsælu barnamyndatökur. - Verð við allra hæfi. Tímapantanir í síma 421 1016
Nýmynd ehf - Iðavöllum 7 - 230 Reykjanesbæ sími 421 1016 - www.nymynd.is - mynd@nymynd.is
þrjár myndir 13x18 cm
20 jólakort
„Kvennaveldið: Konur og kynvitund“ heitir sýning sem opnuð verður á vegum Listasafns Reykjanesbæjar í Duus Safnahúsum í Reykjanesbæ föstudaginn 13. nóvember kl. 18. Á sýningunni er að finna verk eftir tólf listakonur, Doddu Maggý, Guðnýju Kristmanns, Guðrúnu Tryggvadóttur, Hlaðgerði Írisi, Huldu Vilhjálmsdóttur, Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur, Kristínu Gunnlaugsdóttur, Louise Harris, Magdalenu Margréti Kjartansdóttur, Rósku, Valgerði Guðlaugsdóttur og Þórdísi Aðalsteinsdóttur. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur. Leiðarstef sýningarinnar er að finna í texta sem bandaríska skáldkonan Joan Didion skrifaði um konur og femínisma, nefnilega: „Hvað það er að vera kona, ósættanlegar andstæðurnar sem í því felast – hvernig það er að lifa dýpsta vitundarlífi sínu líkt og neðansjávar, við dimman nið blóðs, barnsburða og dauða“. Í þessum texta deilir rithöfundurinn einnig á bandarískan femínisma, sem hún taldi gera lítið úr girnd, myrku ímyndunarafli og
líkamlega tengdum áhyggjum þroskaðra nútímakvenna. Um listakonurnar á sýningunni segir í sýningarskrá: „(Þær) fara ekki í felur með langanir sínar og ímyndanir. Þær segja frá tilurð kynhvatar og kynþroska, opna meira að segja fyrir eldfima umræðuna um kynþokka barna, upphefja áður „óumræðanleg“ fyrirbæri á borð við sköp og fýsn kvenna, flétta saman eigin líffræði, táknfræði og sagnfræði..Áhorfandinn fær á tilfinninguna að í hispursleysi sínu séu myndlistarkonur komnar lengra í tilfinningaþroska en karlkyns starfsbræður þeirra, sjálfskipaðir umsjónarmenn stórra sanninda.“ Í sýningarskrá er einnig að finna ritgerð eftir Sigríði Þorgeirsdóttur, prófessor í heimspeki, sem ber heitið „Meiri spennu og minna stríð milli kynjanna“. Þar deilir hún m.a. á peningahagkerfi nútímans, sem „á upptök sín í hlutgervingu kvenna og meinar þeim á margan hátt að vera þær sjálfar.“ Sýningin í Listasafni Reykjanesbæjar stendur til 24. janúar 2016 og er opin frá 12.00-17.00 alla daga.
-mannlíf
Herrafjör í Leirunni XHerrakvöld X Golfklúbbs Suðurnesja dregur til sín á hverju ári fjölda karlmanna sem finnst fiskur góður, framreiddur af Gunnari Pálli Rúnarssyni og stundum, eins og nú, með aðstoð föður sína, Rúnars Marvinssonar. Um áttatíu karlar tóku fjörið í golfskálanum, borðuðu ljúffengan mat úr hafinu og höfðu gaman saman. Páll Orri Pálsson mætti fyrir hönd VF og smellti þessum myndum.
AT V I N N U V E G A - O G N Ý S KÖ P U N A R R Á Ð U N E Y T I Ð
SAMTÖK F E R Ð A ÞJ Ó N U S T U N N A R
#samferda
ferdamalastefna.is
Samferða OPINN FUNDUR UM NÝJAN VEGVÍSI Í FERÐAÞJÓNUSTU
með Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Grími Sæmundsen, formanni Samtaka ferðaþjónustunnar
Mánudaginn 16. nóvember R E Y K J A N E S B Æ R / Hljómahöllin kl. 20 Sjá nánar á ferdamalastefna.is Allir velkomnir
18
fimmtudagur 12. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-aðsent
www.kronan.is
pósturu vf@vf.is
■■Inga Þórey Jóhannsdóttir skrifar:
Attvæinknifuæ-ri Lagerstjóri óskast í Krónuna Fitjum
Okkur vantar kraftmikinn og duglegan einstakling til starfa. Vinnutími frá 08-16 alla virka daga og annan hvern laugardag frá 08-12. Hæfniskröfur: • • • • •
Ábyrgur einstaklingur. Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. Góðir samskiptahæfileikar. Reynsla af lagerstörfum kostur. Aldurstakmark er 20 ára.
Áfylling kjötvara í Krónunni Fitjum
Okkur vantar duglegan og jákvæðan einstakling í áfyllingar á kjötvörum og önnur tilfallandi störf. Vinnutími frá kl 08-16 alla virka daga. Hæfniskröfur: • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. • Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
Sótt er um störfin á
www.kronan.is Umsóknarfrestur er til og með 22.11.2015
r!
ir þé – óskar eft
+ www.vf.is
83% LESTUR
Geo-park eða Neon-park? Allir inn og loka gluggunum, við grillum þegar það kemur rok
N
o k k r u m vikum eftir að ég f lutti ti l Keflavíkur, fjölskyldan nýbúin að festa kaup á gömlu húsi í elsta hluta b æ j ar i n s , f y r i r 15 árum síðan, fór ég að velta fyrir mér hvaðan k a l d a vatni ð úr k r ananum mínum kæmi. Mér til mikillar furðu höfðu vatnsból bæjarins fyrir löngu orðið mengun að bráð, eftir glórulausa starfsemi á Keflavíkurflugvelli. Í þá daga létu menn hvað sem var gossa ofan i jarðveginn án þess að leiða hugann að afleiðingunum. Afísingarefni fyrir flugvélar, olía og fleira gums fékk að flæða niður í jarðveginn, frjálst og óhindrað. Þetta gerðist ekki bara uppi á sjálfum flugvellinum – það voru jafnt Íslendingar sem Ameríkanar sem gengu svona illa um. Til eru staðfestar tölur um að 100.000 lítrar af olíu hafi lekið úr tönkum á ,,nikkelsvæðinu”. Það svæði liggur mitt á milli Keflavíkur og Njarðvíkur og teygir sig niður eftir miðjum bænum. Þar með tókst mönnum að eitra vatnsbólin til næstu áratuga, ef ekki árhundraða. Hverjir höfðu áhyggjur af því hvort vatnið væri mengað? Það er allavega vitað að Ameríkanar hjá Varnarliðinu höfðu áhyggjur af eigin sóðaskap og fengu til sín fagmenn til að rannsaka vatnið. Ég veit ekki hvort íslensk yfirvöld höfðu einhvern áhuga á þessum málaflokki, en læt það liggja milli hluta. Niðurstöður rannsókna sýndu að vatnið var hvorki mönnum né dýrum bjóðandi. Blessunarlega var hægt að redda málunum með því að sækja vatn í önnur vatnsból á Reykjanesinu. Er hægt að draga einhvern lærdóm af þessu? Ég nefni þetta vegna þess að í dag, 15 árum síðar, stend ég ásamt fjölskyldu minni frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort við eigum að selja húsið okkar, eða leigja það út til að geta flutt annað, á slóðir þar sem við getum verið viss um að anda að okkur þokkalega hreinu lofti.
Þessu velti ég fyrir mér í ljósi þess að búið er að veita leyfi fyrir álveri Norðuráls, kísilveri United Silicon og nú síðast kísilveri Thorsil. Með aðeins eitt stykki umhverfismat á bak við sig, sem notabene var unnið á því tímabili þegar álverið sótti um leyfi. Þetta þýðir að kísilverin tvö (þau stærstu í Evrópu) fá að fljóta frítt með í skjóli álversins. Okkur íbúunum sem höfum kosið að búa í elsta hluta bæjarins, er boðið upp á stóriðju í bakgarðinum okkar af hálfu fyrrverandi og núverandi bæjarstjórnar. Það er aðeins einn og hálfur kílómetri heim til mín frá Helguvík. Hafið þið skoðað þessa hlægilegu teikningu sem sýnir línuna sem markar þynningarsvæðið? Hún liggur þétt við stofugluggann á ysta húsinu uppi á Bergi. Á þessu sama svæði eru kartöflugarðar og gott ef ekki skólagarðar Reykjanesbæjar, ásamt smábátahöfn. Sú spurning vaknar hvort atvinna og peningar sé metið mikilvægara en heilsufar bæjarbúa? Það er enginn feluleikur í sambandi við efnið brennisteinsdíoxíð, sem talið er helsti mengunarvaldurinn þegar um kísilver er að ræða. Þetta er sama efnið og kom upp úr Holuhrauni fyrir ekki svo löngu síðan. Hver man ekki eftir veðurfréttunum meðan á gosinu stóð: Þegar vindurinn blés í ákveðna átt og austfirðingum var ráðlagt að halda sig innandyra. Hefur fólk ekki áhyggjur af því að komast ekki út á pallinn sinn, þá fáu daga sem lygnir í þessum bæ? Og hvað með eigur okkar? Er ekki altalað að brennisteinsdíoxíð valdi tæringu á málmum? Veltum fyrir okkur tjóninu sem þetta gæti valdið, ef við látum þetta yfir okkur ganga án þess að mótmæla og krefjast frekari rannsókna áður en kísilverunum er veitt leyfi. Hvað með tjón á bílum eða bárujárnsklæðningum á húsum og þökum bæjarins? Hvað með mengunarvalda og möguleg heilbrigðisvandamál tengd þeim? Hvað með endursölu húsnæðis, sem verður enn erfiðari en hefur verið hingað til?
Reykjanesið er náttúruperla. Hægt og bítandi hafa ferðamenn og ferðaskrifstofur verið að uppgötva ýmsa möguleika í ferðaþjónustu á svæðinu. Nándin við flugvöllinn gerir þetta ákjósanlegt tækifæri, sem er verið að spilla með verksmiðjuframkvæmdum. Í huganum birtast myndir af bæjarbúum sem t.d. leigja ferðamönnum íbúðir sínar og fá framvegis neikvæð ummæli frá gestum sem kvarta sáran yfir óútskýrðum sviða í augum og öndunarfærum. Í víðara samhengi má velta fyrir sér hvaða áhrif það hafi á áhuga ferðamanna á að koma til landsins þegar verksmiðjum er hrúgað niður, nánast á bæjarhlaði eina alþjóðlega flugvallar Íslands. Þessa dagana flæða yfir okkur jákvæðar fréttir í fjölmiðlum um gang mála hjá Thorsil. Eina fyrirtækið af þessum þremur sem enn hefur ekki fengið öll tilskilin leyfi, sem er ástæða þess að hópur íbúa fór af stað með undirskriftasöfnun í sumar. Hópurinn á það helst sameiginlegt að trúa því að bæjarbúar hafi enn tækifæri til að hafa áhrif á gang mála. Rafræn íbúakosning um breytingu á deiliskipulagi í Helguvík mun fara fram dagana 24. nóvember til 4. desember. Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að taka þátt í kosningunum, en um leið lætur hann hafa eftir sér að niðurstaðan verði ekki bindandi, bara ráðgefandi. Það lýðræðisskrum er efni í aðra grein, en ég efast sárlega um að maðurinn sé að vinna fyrir mig eða mitt fólk. Ætlum við í alvörunni að láta hræða okkur með tali um skuldastöðu bæjarins og atvinnuleysi, sem vel að nefna, mælist mjög lítið þessi misserin? Er það í alvörunni þess virði að taka sénsinn fyrir skjótfenginn gróða og nokkur störf? Svo ég vísi nú aftur í menguðu vatnsbólin þá er eitt alveg öruggt: Það verður mun flóknara að sækja hreint loft eitthvert annað ef „eftirá“ rannsókn leiðir í ljós alvarlegar afleiðingar þess að menn og dýr búi svo nálægt kísilverum og annarri stóriðju. Inga Þórey Jóhannsdóttir
Öll tölublöð Faxa aðgengileg í stafrænni útgáfu Ö
ll tölublöð tímaritsins Faxa eru nú aðgengileg í stafrænni útgáfu á vefnum á slóðinni timarit.is. Elsta tölublaðið er frá árinu 1941 en með útgáfu nýjasta tölublaðs Faxa sem kom út í október sl. og er nr. 534 hafa alls verið prentaðar 13.286 síður. Valtýr Guðjónsson fyrsti ritstjóri Faxa ritaði ávarp í fyrsta tölublað sem kom út þann 21. desember 1941 en þar segir hann um hlutverk tímaritsins Faxa: „Það, sem vakir fyrir Málfundafélaginu Faxi í Keflavik, er það ræðst i þessa blaðagáfu, er meðal annars þetta: Sú þögn, sem ríkir um menningar- og framfaramál þessa héraðs bæði utan þess og innan, er óréttmæt og óholl. Héraðsbúum sjálfum þarf að gefast kostur á að
fylgjast með því, hvað er að gerast í þeirra fjölmenna og athafnasama héraði.“ Að sögn Eysteins Eyjólfssonar formanns blaðstjórnar Faxa eiga þessi orð eins vel við í dag og fyrir 75 árum og gefast nú aukin tækifæri til þess að nýta tímaritið til heimildaröflunar um horfna tíð á Suðurnesjum. „Það er mjög ánægjulegt að Faxi sé nú allur kominn á rafrænt form. Tölublöðin sem gefin hafa verið út af tímaritinu eru m.a. samfelldasta sögulega heimildin um Suðurnesin síðustu 75 árin og nú öll aðgengileg þeim sem vilja fræðast um Suðurnesin. Styrkurinn sem
F a x i hlaut úr Uppbyggingasjóði Suðurnesja gerði gæfumuninn og okkur kleift að ljúka verkefninu á þessu 75. útgáfuári tímaritsins, sem var vel við hæfi.“
19
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 12. nóvember 2015
-fréttir
pósturu vf@vf.is
Leikskólafólk aflaði fjár með miðilsfundi
S
tarfsfólk leikskólans í Vogum stóð fyrir opnum skyggnilýsingarfundi í síðustu viku, þar sem Þórhallur Guðmundsson miðill var með skyggnilýsingar. Skyggnilýsingar og miðilsfundir eru þessa dagana talsvert í samfélagsumræðunni og sýnist sitt hverjum, segir í vikulegu fréttabréfi sem Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum, sendir frá sér. Skyggnilýsingafundurinn var haldinn sem fjáröflunarsamkoma vegna fyrir-
hugaðrar námsferðar starfsfólks leikskólans árið 2017. Íbúar sveitarfélagsins virðast hins vegar margir hafa áhuga á málefninu, því aðsóknin var góð, segir
bæjarstjórinn. „Góður rómur var gerður að lýsingum Þórhalls, sem var sagður hafa farið á kostum og komið fram með margvíslegar vísbendingar um ýmis tengsl við gesti fundarins sem erfitt var að véfengja,“ segir Ásgeir Eiríksson í fréttabréfinu og bætir við: „Bæjarstjóri hefur leitt hugann að því að fá Þórhall til að aðstoða við fjárhagsáætlunargerðina, ekki síst væri nú gott að fá aðstoð við að spá um tekjujöfnunarframlag næsta árs úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga,“ og setur svo broskall í lok færslunnar.
Fríar blóðsykursmælingar Lions L
– á Suðurnesjum
augardaginn 14. nóvember frá kl.12:00-16:00 munu Lionsklúbbur Keflavíkur, Lionsk lúbbur Njarðvíkur, L ionsk l ú bbu r i n n Æ s a Nj a rð v í k , Lionsklúbburinn Garður, Lionsklúbbur Sandgerðis og Lionessuklúbbur Keflavíkur í samstarfi við Lyfju í Krossmóa, vera í Nettó
Krossmóa að bjóða fólki upp á fría blóðsykursmælingu. Þetta er gert í tilefni af Alþjóðadegi sykursjúkra en nóvember er mánuður sykursýkisvarna hjá Lions. Lionsklúbbur Grindavíkur verður með fría blóðsykursmælingu í Nettó í Grindavík föstudaginn 13. nóvember kl. 13-16. Þá verður
Lionsklúbburinn Keilir í Vogum með blóðsykursmælingu í Iðndal 2 í Vogum laugardaginn 14. nóvember kl. 13-15. Markmiðið með átakinu er að vekja almenning til umhugsunar um hættuna sem getur stafað af því að ganga með dulda sykursýki.
KÆRU VINKONUR KONUKVÖLD Í BLÁA LÓNINU Þér og vinkonum þínum er boðið í létt dekur á huggulegu konukvöldi fimmtudaginn 19. nóvember klukkan 19:30, í verslun okkar í Bláa Lóninu. • 30% afsláttur af Blue Lagoon húðvörum • 20% afsláttur af öðrum vörum • Glaðningur með öllum vörukaupum • Allar konur sem versla fara í pott og þrjár heppnar geta unnið veglegan húðvörupakka • Veitingar frá matreiðslumeisturum LAVA • Tónaflæði í höndum DJ Yamaho
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001
20
fimmtudagur 12. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-aðsent
pósturu vf@vf.is
■■Ásmundur Friðriksson skrifar um almenningssamgöngur:
Hagsmunir þúsunda íbúa hljóta að vega þyngst – Sveitarfélögin á landsbyggðinni þvinguð í taprekstur
E
ngum stjórnmálamanni d ettur í hug að leggja það til að strætókerfi höfuðb orgarsvæ ðisins verði tætt í sundur og þær leiðir sem skila hagnaði verði dregnar út úr kerfinu og gerðar að samkeppnisleiðum þar sem rútu- og ferðaþjónustufyrirtækin í landinu geta keyrt á þeim leiðum en láti sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu eftir að aka leiðarnar sem standa ekki undir kostnaði. Þó eru margar leiðir í strætókerfi höfuðborgarinnar sem skila góðum hagnaði sem eðlilega standa undir kostnaði við þær leiðir sem ekki bera sig. En þegar kemur að almenningssamgöngum á landsbyggðinni gilda önnur lögmál. Þar sem fáar en sterkar leiðir bera upp net áætlana til fámennari byggða eru teknar út úr kerfinu og gerðar að samkeppnisleiðum og sveitafélögin sitja því eftir með þær leiðir sem ekki standa undir kostnaði. Mikilvægt kerfi almenningssamgangna sem sveitarfélögin hafa byggt upp, mun dragast saman og bitna mest á námsfólki og eldri borgurum. Fólksins á landsbyggðinni sem við eigum að standa vörð um. En rútufyrirækin sem koma á háannatíma fleyta rjómann af fjölda farþega yfir sumarið en hverf jafn harðan þegar umferðin minnkar á haustin og eftirláta sveitarfélögunum að
þreyja Þorrann og Góuna með taprekstri. Sveitarfélögin byggðu upp öflugar almenningssamgöngur Með eflingu almenningssamgangna í landinu á síðustu árum hefur þjónustan skipt sköpum fyrir íbúa í dreifðari byggðum landsins og farþegum í kerfinu hefur fjölgað um tugi, jafnvel hundruð þúsunda farþega á ári, mismundandi eftir svæðum. Fjölgun farþega hefur gert sveitarfélögunum kleift að bætta þjónustuna sem hefur gjörbreytt stöðu unga fólksins í dreifðari byggðum landsins og opnað þeim nýja leið til að stunda framhalds- og háskólanám í höfuðborginni. Unga fólkið sem á heima í nálægð við stærri byggðakjarna getur nú sótt framhaldsnám á hverjum degi með þéttriðnu neti almenningssamgangna gegn hóflegu gjaldi og búið áfram í foreldrahúsum. Þannig geta námsmenn á Suðurnesjum, Vesturlandi og Suðurlandi sótt háskólanám til höfuðborgarinnar á hverjum degi en búið áfram í Sandgerði, Selfossi, eða Borgarnesi. Dýrt leiguhúsnæði sem er af skornum skammti er því ekki þröskuldur fyrir háskólanámi í höfuðborginni vegna góðra almenningssamgangna. Þessu til viðbótar nota eldriborgarar í hinum dreifðu byggðum strætó til að sækja sér ýmsa þjónustu til höfuðborgarinnar, eins og læknis og sérfræðiþjónustu hverskonar. Margir treysta sér ekki að aka í höfuðborginni eða ferðast um langan veg, jafnvel báðar leiðir sama daginn. En þétt áætlun strætó hefur opnað
nýja ódýra og þægilega leið fyrir eldra fólkið sem nýtir þjónustuna í auknu mæli. Nú er gengið að þessari þjónustu sveitarfélaganna með því að einkavæða þær leiðir sem skila hagnaði á landsbyggðinni. Þannig ók eitt rútufyrirtækið á Suðurlandi í allt sumar og var með áætlun nokkrum mínútum á undan strætó og hirti þannig megnið af öllum farþegunum frá Reykjavík að Höfn. Nú hefur dregið úr straumi ferðamanna á svæðinu og rútufyrirtækið því hætt akstri á leiðinni en sveitarfélögin sitja uppi með áætlun fram á vor sem ekki stendur undir kostnaði á jafn góðu kerfi og byggt hefur verið upp. Í vor með komu fleiri ferðamanna mæta þeir sem fleyta rjómann af ferðamönnum og hirða kúfinn frá sveitarfélögunum. Þetta hefur aðeins eitt í för með sér að tapið sem verður á almenningssamgöngum sveitarfélaganna mun draga úr þjónustu við fólkið á landsbyggðinni. Ég trúi því ekki að vilji meirihluta þingsins standi til þess. Mismunun er óþolandi og ég trú því ekki að þingmenn láti það gerast fyrir fram nefið á sér að fólki í landinu sem mismunað á þennan hátt, nægur er ójöfnuðurinn þegar kemur að heilbrigðis og menntakerfinu í landinu sem flestir verða að sækja til höfuðborgarinnar. Sveitafélögin vilja stuðningi við almenningssamgöngur Í heimsókn þingmanna Suðurkjördæmis til sveitarfélaganna í kjör-
dæmaviku fyrir skömmu, bað hver einasta sveitar- og bæjarstjórn þingmenn að hjálpa til við að tryggja áfram öflugt net almenningssamgangna sem eitt helsta hagsmunamál námsmanna og íbúa í kjördæminu. Ég hef miklar áhyggjur af því að ekki sé nægur vilji fyrir hendi hjá of mörgum þingmönnum til að uppfylla þessa ósk. Með þeim afleiðingum að lífæðar strætókerfisins á landsbyggðinni verði gerðar að samkeppnisleiðum þar sem hagmunir þúsunda íbúa á landsbyggðinni verði látnir víkja fyrir hagsmunum fárra. Þetta heitir á mannamáli, að einkavæða hagnaðinn og ríkisvæða tapið. Ef þingmenn standa ekki vörð um almenningssamgöngur í landinu verður dregið verulega úr þjónustu fyrir viðkvæma hópa á landsbyggðinni allt árið. Unga fólkið sem getur búið í foreldrahúsum verður að finna sér aðrar leiðir til að búa og þá í dýru leiguhúsnæði sem jafnvel er ekki á lausu. Ég vil ekki búa þannig að námsfólkinu á landsbyggðinni. Sveitarfélögin munu ekki standa undir tugmilljóna taprekstri þar sem einkaaðilar fá að fleyta rjómann af farþegunum í stuttan tíma á ári og láta síðan ekki sjá sig þess á milli. Er það réttlætið sem á að ráða ferðinni. Ég sem sjálfstæðismaður hef haft að leiðarljósi að við stöndum saman stétt með stétt og stöndum vörð um hagsmuni fólksins, líka á landsbyggðinni. Ásmundur Friðriksson alþingismaður.
■■Guðlaugur H. Sigurjónsson skrifar:
Þaulhugsað „klúður“ Í
innsendri grein í Morgunblaðinu 7. nóvember síðastliðinn gagnrýnir Virgill Scheving Einarsson nokkuð harðlega framkvæmdir við nýtt hringtorg við Stekk á Fitjum og kallar þær einu orði klúður. Greinarhöfundur fer yfir nauðsyn þess að tengja Ásbrú við verslunarsvæði á Fitjum fyrir gangandi vegfarendur og að tengja Hafnaveg við nýtt hringtorg. Við á Umhverfissviði Reykjanesbæjar höfum átt í góðri samvinnu við Vegagerðina um að bæta umferðaröryggi á og við Reykjanesbraut. Árið 2009 voru tekin í notkun hringtorg og undirgöng við Grænásbraut og var þar horft til hárrar slysatíðni á þeim gatnamótum og þess að tryggja skólabörnum örugga leið undir Reykjanesbraut, enda sækja sum börn skóla í önnur hverfi. Eftir þær framkvæmdir hafa ekki orðið slys á mönnum á þessum gatnamótum en þau voru mjög tíð fyrir. Sama á við um umrædd gatnamót við Stekk, þar hafa alltof oft orðið alvarleg slys enda gatnamótin stórhættuleg. Við erum afar þakklát Vegagerðinni fyrir að taka vel í bón okkar um framkvæmdir en þær eru samvinnuverkefni hennar og Reykjanesbæjar. Þetta er verkefni sem þoldi enga bið. Virgill gagnrýnir að ekki sé hugsað fyrir því að tengja Hafnaveginn við hringtorgið og þar með að loka þeim gatnamótum. Það er einmitt hugsunin að tengja Hafnaveg við hring-
torgið og það verður gert um leið og breytt aðalskipulag lítur dagsins ljós á næsta ári og munum við sækja það hart að framkvæmdir hefjist í framhaldi. Við munum byrja á því að loka fyrir vinstri beygju á gatnamótunum við Hafnaveginn og er það fyrsta skrefið. Varðandi undirgöng þá hefði það líklega fyrst orðið klúður ef farið hefði verið í að setja undirgöng við hringtorgið því enginn hefði nýtt sér þau vegna hve langt frá göngulínu íbúa þau hefðu verið. Við munum með breyttu skipulagi gera ráð fyrir undirgöngum undir Reykjanesbraut sem munu nýtast íbúum Ásbrúar og höfum kynnt fulltrúum Vegagerðar þau áform og hefur verið vel tekið í þau. Mikilvægt er að það komi fram að þær framkvæmdir sem nú standa yfir eru bráðabirgðaframkvæmdir því tvöföldun Reykjanesbrautar upp að hringtorgi við Rósaselstjörn, síðasta hringtorgið áður en komið er að Flugstöð Leifs Eiríkssonar, er löngu orðin tímabær enda fara um þennan veg um 10.000 bílar á sólarhring og þeim mun fjölga umtalsvert ef spár um fjölgun ferðamanna ganga eftir. Reyndar gerum við ráð fyrir að það hringtorg sem unnið er við núna geti verið tvöfaldað og er hannað sem slíkt. Mikill fjöldi þessara ökumanna eru óvanir íslenskum aðstæðum og því mjög mikilvægt að vegakerfið, merkingar og lýsing séu góð. Þá munu, samkvæmt skipulagi, koma mislæg gatnamót norðan við Grænástorg. Undirritaður vill hvetja Virgil, sem og aðra sem hafa áhuga á fram-
Bæjarráð vill fá fulltrúa ríkisins í kröfuhafaráð Reykjaneshafnar XX„Bæjarráð hefur óskað eftir því að ríkið skipi fulltrúa í kröfuhafaráð Reykjaneshafnar en í því sitja fulltrúar helstu kröfuhafa ásamt okkar teymi. Mjög mikilvægur þáttur í þeim viðræðum snýst um að fá niðurstöðu í hvort ríkið ætlar að koma með fé inn í uppbyggingu Helguvíkur,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar en bæjarráð samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag að óska eftir því við ríkið að það skipi fulltrúa í kröfuhafaráð Reykjanesbæjar. Formaður bæjarráðs og bæjarstjóri gerðu grein fyrir viðræðum við kröfuhafa. Eins og fram hefur komið hafa kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar ásamt fyrrverandi og núverandi bæjarstjóra í mjög langan tíma talað því máli. „Með því að ríkið skipi fulltrúa í kröfuhafaráðið yrðu boðleiðir styttri og upplýsingastreymi til ríkisins betra,“ sagði Kjartan.
Fárveiktist eftir inntöku hakakrosstöflu XXLögreglan á Suðurnesjum þurfti nýverið að hafa afskipti af pilti sem fárveiktist eftir neyslu á fíkniefnatöflu sem merkt var með hakakrossmerki. Þegar pilturinn kom heim að næturlagi sáu þeir sem þar voru fyrir að hann var gjörsamlega út úr heiminum, ofsafenginn og til alls vís. Eftir að hafa beitt einn viðstaddra ofbeldi datt hann í gólfið kastaði upp og froðufelldi. Skömmu síðar hófst hamagangurinn aftur og var þá gripið til þess ráðs að kalla lögreglu til og biðja um að hann yrði fjarlægður. Við húsleit í herbergi hans fundust tvær töflur með hakakrossmerki og lögðu lögreglumenn hald á þær. Lögregla ítrekar aðvörunarorð sín vegna þessa umrædda fíkniefnis í formi taflna með hakakrossi. Upp hafa komið mörg mál þar sem aðilar sem hafa neytt töflunar eru gjörsamlega út úr heiminum og stórhættulegir sjálfum sér og öðrum.
Vildu fá lánaðan bílinn hjá bænum XXUngmennafélagið Þróttur í Vogum óskaði eftir því í erindi til bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga að sveitarfélagið tæki þátt í tilraunaverkefni með ungmennafélaginu. Í erindinu er þess farið á leit við sveitarfélagið að heimiluð verði afnot af bíl sveitarfélagsins til að sinna akstri barna á knattspyrnuæfingar í Grindavík. Afgreiðsla bæjarráðs var á þann veg að það getur ekki orðið við erindinu.
Vogar fá 23 þorskígildistonna byggðakvóta
kvæmdum í Reykjanesbæ, að kynna sér áform okkar á næstu árum. Einnig tökum við á Umhverfissviði fagnandi við ábendingum um það sem betur má fara. Það er mjög mikilvægt þegar framkvæmdarfé Vegagerðar er í lágmarki að rétt sé forgangsraðað og þá horft fyrst á „svartbletti“ í umferð-
inni, þ. e. þá staði sem tíð slys hafa verið og ég er þess fullviss að þarna hefur forgangurinn verið réttur. Guðlaugur H. Sigurjónsson Höfundur er sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjanesbæjar .
Sveitarfélagið Vogar hefur fengið úthlutað 23 þorskígildistonna byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2015 til 2016. Þetta kemur fram í erindi atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins til sveitarfélagsins. Kvótinn verður auglýstur til úthlutunar hjá Fiskistofu, sem annast úthlutun kvótans á grundvelli þeirra reglna sem um það gilda. Í fundargerð bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga frá því í síðustu viku er úthlutun 23.000 þorskígildiskílóa fagnað.
jólastjörnu Björgvins 21
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 12. nóvember 2015
-fs-ingur
vikunnar
Hræðist þess að verða grafinn lifandi
Bílaviðgerðir r a g in ið e fl Fá a Partasala s s ly umferðars Kaupum bilaða og tjónaða bíla beint í æð TIL LEIGU
Til leigu 4 herbergja nýleg íbúð í innri Njarðvík. Laus í byrjun desember. Fyrirspurnir og upplýsingar sendist á xfasteign@gmail.com.“
FS-ingur vikunnar er Elmar Þór Þórisson en hann er 17 ára Keflvíkingur á íþróttafræðibraut. Honum finnst vanta pizzuofn í mötuneytið og á alveg rosalega erfitt með að vakna á morgnana. Á hvaða braut ertu?
Ég er á íþróttafræði braut. Hvaðan ertu og aldur?
Ég er fæddur og uppalinn í Keflavík og er 17 ára gamall. Helsti kostur FS?
Held ég segi mötuneytið. Áhugamál?
Félagslífið og bardagaíþróttir. Hvað hræðistu mest?
Að vera grafinn lifandi væri það hræðilegasta. Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna?
Mér finnst líklegast að Samúel Þór verður frægur fótboltamaður.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Ég ætla að gefa Steina Flame$$$ þann titil. Hvað sástu síðast í bíó?
Scouts Guide To the Zombie Apocalypse. Hvað finnst þér vanta í mötuneytið?
Einhvern geðveikann pizza ofn. Hver er þinn helsti galli?
Á allveg fáranlega erfitt með að vakna á morgnana. Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér?
Snapchat, Instagram og Facebook.
Til leigu 100 fm bílskúr miðsvæðis i Keflavik sem hægt er að breyta í íbúð. Upplýsingar gefur Sverrir í S. 661-7000
það helsta. Hvaða frasa eða orð notar þú oftast?
Ég er bara ekki viss haha.
sími 421 7979
senda umsókn á joarinn@simnet.is
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00
Hvernig verður 15f.m. Herb.til leigu hringbraut til? ningvelkomin listsýVerið 136 með aðgang að baðherbergi
Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?
Mér finnst það bara mjög fínt, soldið skipt niður í matsalnum samt.
ÓSKAST
Stofna eða eiga mitt eigið fyrirtæki.
Karlmaður með 1 barn óskar eftir íbúð.Öruggar greiðslur. Upplýsingar í síma 7715357.
Hver er best klædd/ur í FS?
Vefsíður:
Held ég verð að segja Íþróttir. Sjónvarpsþættir:
Friends eru alltaf
Hljómsveit/tónlistarmaður:
66 úlpann er það þæginlegasta.
Allar Lord of the rings myndirnar.
Flíkin:
Er mest að vinna með Travis Scott, Justin Bieber, Drake og Post Malone á stundinni.
Skyndibiti:
Leikari:
Dettur ekkert sérstakt í hug en hef átt nokkur svoleiðs lög áður ha...ha...
Leonardo Dicaprio.
VIKULEGUR MAGASÍNÞÁTTUR
FIMMTUDAGA
Hlöllabátar.
KL. 21:30
Hvaða tónlist/lag fílarðu í laumi (gulity pleasure)?
Á ÍNN OG VF.IS
KL. 21:30
Fag í skólanum:
Víkurfréttir eða Vísir.
SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A – 1 5 - 2 3 6 1
- alltaf eitthvað nýtt í hverri viku!
Flug fyrir 2 til Kaupmannahafnar, Berlínar, London eða Dublin.
Flug fyrir 2 með öllum notuðum Mercedes-Benz Mercedes-Benz B–Class nýtur mikilla vinsælda, enda framúrskarandi kostur. Þeir sem kaupa notaðan Mercedes-Benz í eigu Öskju í nóvember, að verðmæti 1,5 milljónir eða meira, fá flug fyrir tvo með WOW Air í kaupbæti og vetrardekk að auki. Allir notaðir Mercedes-Benz hjá okkur hafa fengið þjónustuskoðun fyrir veturinn.
B 180, árgerð 2013, ekinn 38 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 109 hö.
Bakkmyndavél, árekstrarvari, krómpakki, hiti í framsætum, 16" álfelgur, inniljósapakki, sætisþægindapakki o.fl.
Verð 4.490.000 kr. Afb./mán. 41.900 kr.*
*Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9% og árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,73–10,79%
K. STEINARSSON • Holtsgötu 52 • Reykjanesbær Sími 420 5000 • ksteinarsson.is
ASKJA NOTAÐIR BÍLAR • Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 www.notadir.is • Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16
FIMMTUDAGA
í miklu uppáhaldi. Kvikmynd:
- alltaf eitthvað nýtt í hverri viku!
Kolla allan daginn.
Á ÍNN OG VF.IS
Kennari:
SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA
Ég myndi segja Arnór Breki Atlason
www.bilarogpartar.is
Yfir hundrað Hvítasunnukirkjan í Keflavík, þættir frá upphafi! Hafnargötu 84
Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?
Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS?
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
Þriggja herbergja íbúð miðsvæðis í Keflavík upplýsingar í síma 7733284 og 7875845 eftir kl 13
Fleiri böll væri ábyggilega
Eftirlætis
smáauglýsingar
-
22
fimmtudagur 1. október 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir
MISSTI ÁHUGANN Á KÖRFUBOLTA Valur Orri sneri við blaðinu og hefur aldrei spilað betur
Mynd: Skúli Sig. // karfan.is
Keflvíkingar fara af stað með látum í Domino´s deild karla í körfubolta og hafa enn ekki tapað leik. Leikstjórnandinn Valur Orri Valsson hefur stjórnað leik liðsins eins og herforingi. Valur var orðinn leiður á körfubolta fyrir ekki svo löngu síðan. Hann var þungur og pirraður á vellinum. Nú er allt annað að sjá til þessa efnilega leikmanns sem hefur aldrei spilað betur og er í sínu besta formi.
K
eflvíkingar eru taplausir eftir fimm umferðir þrátt fyrir að þeim hafi ekki verið spáð góðu gengi af svokölluðum sérfræðingum. Í Keflavík hafa slíkar spár litla þýðingu og eflaust eru þær bensín á bálið frekar en hitt. Ein af helstu ástæðunum fyrir velgengni Keflvíkinga þetta tímabilið er hinn 21 árs leikstjórnandi Valur Orri Valsson. Hann er að spila betur en nokkru sinni fyrr og virkar léttari á fæti sem og í lundu. Valur kom til Keflavíkur árið 2011 en hann var aðeins 14 ára árið 2009 þegar hann steig sín fyrstu skref í úrvalsdeild með Njarðvíkingum. Hann spilar nú eins og reynslubolti þrátt fyrir að vera rétt kominn með aldur til þess að fara í Ríkið. Leið ekki vel „Ég ákvað að koma að mér í almennilegt form. Maður verður bara sjálfkrafa betri við það. Ég lenti í smá meiðslum í baki sem ekki margir vita af. Svo þyngdist ég og missti eiginlega áhugann á körfubolta í smá tíma, mér leið bara ekkert vel,“ segir Valur einlægur en sú var staðan síðustu tvö tímabil hjá leikstjórnandanum. „Þetta var mikill pirringur í mér sem ég fór að átta mig á að væri bara kjaftæði og að ég þyrfti að rífa mig í gang.“ Valur mætti samviskusamlega í ræktina í sumar eftir erfiða tíma innan og utan körfuboltavallarins. „Áhuginn var bara ekki til staðar. Mér fannst bara allt ömurlegt og leiðinlegt einhvern veginn þannig að ég var ekkert að láta sjá mig í ræktinni eða hugsa um mataræðið.“ Hann fór ekki á neinn sérstakan matarkúr. Heldur fór hann að hugsa um hvað hann var að láta ofan í sig og minnka skammtana. Valur telur að hann sé líklega 7-8
kílóum léttari en á tímabilinu 201314 þegar hann var sem þyngstur. „Fyrst og fremst þarf maður að vilja þetta sjálfur. Þetta var nefnilega alltaf í boði. Maður þarf bara að gera þetta. Þetta er allt annað og það er helvíti gaman að vera kominn í fínt stand. Maður heldur alltaf að þetta geti ekki gerst.“ Þroskast með aukinni ábyrgð
Valur var gerður af varafyrirliða hjá Keflavík fyrir tímabilið og hefur fengið stærra hlutverk hjá liðinu. „Bæði Siggi (Ingimundar) og Einar (Einars) eru að segja mér að ég sé aðalmaðurinn inn á vellinum og eigi að sjá um hlutina þar. Þegar við erum að spila svona vel saman þá þarf maður þess ekkert. Bara að sjá til þess að við séum að gera þetta saman sem lið.“ Valur lítur á nafnbótina sem mikið hrós og segist finna aukna ábyrgð sem henni fylgir þrátt fyrir að hann sé ekki að velta því of mikið fyrir sér. Valur hefur verið að breyta leik sínum undanfarin ár úr því að vera mikill skorari yfir í að vera sá sem leitar félagana uppi og stjórnar spilinu „Mér finnst ég hafa þroskast sem leikmaður og vera betri núna en ég var fyrir nokkrum árum,“ segir hann. Skotin eru þó að rata rétta leið og Valur hefur aldrei skorað meira en í ár þar sem hann er með tæp 15 stig að meðaltali. Valur skorar að jafnaði 2,6 þrista í leik og hefur þriggja stiga nýtingin aldrei verið betri hjá pilti, eða rúmlega 56%.
Ég lenti í smá meiðslum í baki sem ekki margir vita af. Svo þyngdist ég og missti eiginlega áhugann á körfubolta í smá tíma, mér leið bara ekkert vel
„Þetta hefur verið að falla hjá mér. Ég held að það hafi komið eftir að ég fór að skjóta mikið í sumar. Ég er búinn að finna betri takt í skotinu mínu. Ætli það sé ekki formið líka.“ Næstu leikir Keflvíkinga eru gegn Grindavík, KR og Tindastóli. Grannaslagurinn gegn Grindavík er á morgun föstudag í Grindavík. „Ég held að næstu leikir séu áskorun fyrir okkur um hvort við getum verið að berjast um titilinn. Ég veit að við getum verið í topp fjórum því við erum með það gott lið. Þannig að þetta er ákveðin prófraun fyrir okkur og það verður gaman að sjá hvar við stöndum í samanburði við þessi lið,“ segir Valur að lokum.
AÐALFUNDUR MÁNA Aðalfundur Hestamannafélagsins Mána verður haldinn fimmtudaginn 26. nóvember í félagsheimili Mána og hefst hann kl.20:00. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar og nefnda 2. Viðurkenningar 3. Kosning stjórnar og nefnda 4. Önnur mál Stjórn Mána
JÓLAMATSEÐILL PANTANIR HAFNAR Í JÓLASEÐIL KEF RESTAURANT SEM BYRJAR
3. DESEMBER.
GUNNI PALLI VERÐUR GESTAKOKKUR
21. - 26. NÓVEMBER EKKI MISSA AF ÞESSU!
MUNIÐ BORÐAPANTANIR
Vatnsnesvegi 12 // 230 Reykjanesbæ // 420 7011
23
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 1. október 2015
Eyþór Sæmundsson // pósturu eythor@vf.is
Gunnar er kominn heim XXMiðjumaðurinn Gunnar Þorsteinsson skrifaði undir þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt Grindavík eftir að hafa leikið með ÍBV síðustu þrjú tímabil í Pepsi-deildinni. Gunnar er 21 árs miðjumaður sem hefur leikið 56 leiki í Pepsi-deild og 11 bikarleiki og skorað 2 mörk. Gunnar lék með Grindavík í yngri flokkum en var í tvö ár í unglingaliði Ipswich Town áður en hann fór í ÍBV.
Sigur í fyrsta bikarmóti vetrarins
Jónas Guðni hugsanlega á heimaslóðir XXKeflvíkingar hafa átt í viðræðum við miðjumanninn Jónas Guðna Sævarsson sem lék með Keflvíkingum upp alla yngri flokka og á árunum 2002-2007 með meistaraflokki. Hann hefur síðan leikið með KR og sem atvinnumaður í Svíþjóð. Yngsti bróðir Jónasar, Fannar Orri, leikur með Keflavík en hann er 18 ára og þykir mikið efni. „Það væri gaman að spila með litla bróður. Það kemur í ljós í framtíðinni en ég á eitt ár eftir af samningi mínum við KR.“ Þannig að þú lokar ekkert hurðinni á endurkomu á heimaslóðir? „Maður gerir það aldrei, það er ekki hægt að gera það,“ sagði Jónas í samtali við VF í fyrra. Jónas er samningslaus og samkvæmt frétt Vísis eru Keflvíkingar búnir að ræða við hann á meðan hann hefur gefið öðrum liðum afsvar.
Már með nýtt Íslandsmet Frábær árangur NES á Íslandsmótinu í sundi XX Sundlið NES átti frábærum árangri að fagna þegar Íslandsmót ÍF í sundi fór fram í 25 metra laug um helgina. Már Gunnarsson úr NES gerði sér lítið fyrir og setti nýtt Íslandsmet í 400 metra skriðsundi þar sem hann synti á 4.58. mínútum. Flestir keppendur frá NES nældu sér í medalíu á mótinu og voru að bæta tímana sí n a . S an n ar l e g a glæsilegur árangur.
XXTaekwondolið Keflavíkur sigraði í heildarstigakeppninni á fyrsta bikarmóti vetrarins sem haldið var í Sandgerði um helgina. Ármenningar voru í öðru sæti aðeins hársbreidd frá sigrinum og því greinilegt að það verður hörkubaráttu um bikarmeistaratitilinn. Samanlagður árangur þriggja móta gildir til titilsins. Svanur Þór Mikaelsson úr Keflavík var valinn keppandi mótsins í karlaflokki.
Arnór, Elías og Ingvar í A-landsliðið XXÞeir Arnór Ingvi Traustason, Ingvar Jónsson og Elías Már Ómarsson eru meðal leikmanna sem taka þátt í æfingaleikjum A-landsliðsins í knattspyrnu á næstunni. Hópurinn mun leika gegn Pólverjum og Slóvökum í nóvember. Ingvar og Elías hafa fengið tækifæri í æfingaleikjum landsliðsins áður en Arnór er að fá sitt fyrsta tækifæri eftir frábært tímabil í Svíþjóð þar sem hann var lykilmaður í meistaraliði Norrköping. Hann hafði verið valinn áður en gat ekki leikið sökum meiðsla.
Keflvíkingar eignuðust Íslandsmeistara í stökkfimi XXFimleikadeild Keflavíkur eignaðist tvo Íslandsmeistar a í stök k fimi um li ðna helg i. Í A-flokki 12-13 ára varð Lovísa Andrésdóttir Íslandsmeistari á dýnu og Thelma Rún Eðvaldsdóttir hlaut annað sætið, ásamt því að ná öðru sætinu í samanlögðum árangri. Í sama flokki varð Andrea Dögg Hallsdóttir í öðru sæti á trampolíni. Í B-flokki 14-15 ára varð Tanja Ýr Ásgeirsdóttir í þriðja sæti á dýnu. Í A-flokki 14-15 ára hlaut Alma Rún Jensdóttir Íslandsmeistaratitil á trampolíni og í samanlögðum árangri ásamt því að ná öðru sætinu á dýnu. Í opnum flokki 16 ára og eldri hlaut Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman annað sæti á dýnu, trampolíni og í samanlögðum árangri.
www.vf.is/ithrottir
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001
ATVINNA
TG RAF Í GRINDAVÍK ÓSKAR EFTIR RAFVIRKJA TIL STARFA TG raf er framsækið fyrirtæki í örum vexti og leggur metnað í að vera leiðandi í þjónustu við sjávarútveginn. Lögð er mikil áhersla á vönduð vinnubrögð og að skila verkum sem starfsmenn TG raf geta verið stoltir af. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í fjölbreytt starf í skiparafmagni og þjónustu við höfn, fiskvinnslur og verksmiðjur.
Hæfniskröfur: - Menntun á sviði rafvirkjunar. -Reynsla í rafvirkjun. - Reynsla í skiparafmagni er kostur. - Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. - Sveigjanleiki og áreiðanleiki. - Jákvætt viðhorf og lipurð í samskiptum.
Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á tgraf@tgraf.is fyrir 23. nóvember 2015.
HORFÐU í KVÖLD KL. 21:30 Á ÍNN OG VF.IS
Níu ára í úrslitum jólastjörnu Björgvins
Fá afleiðingar umferðarslyss beint í æð Hvernig verður listsýning til?
Yfir hundrað þættir frá upphafi! VIKULEGUR MAGASÍNÞÁTTUR
FIMMTUDAGA
KL. 21:30
Á ÍNN OG VF.IS SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA
JÁKVÆÐNI - ELDMÓÐUR - TRAUST - FRAMSÆKNI - FAGMENNSKA
- alltaf eitthvað nýtt í hverri viku!
vf.is
-mundi Eru ekki öll kurl komin til grafar?
Íbúðalánasjóður selur fleiri eignir til leigufyrirtækja - ÍLS á 498 eignir á Suðurnesjum XÍbúðalánasjóður X tók á dögunum 44 íbúðir á Suðurnesjum úr sölu og er ætlunin að selja þær saman til íbúðaleigufyrirtækja. Alls tók sjóðurinn 101 íbúð víða um land úr sölu. Meirihluti eignanna á Suðurnesjum er í Reykjanesbæ, eða 38. Tvær eignanna eru í Garði, tvær í Grindavík, ein í Vogum og ein í Sandgerði. Að sögn Gunnhildar Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Íbúðalánasjóðs, eru þetta íbúðir sem taldar eru hentugar til leigurekstrar. „Íbúðalánasjóði er ekki ætlað að eiga íbúðir til lengri tíma. Nú er tækifæri til að selja og vill sjóðurinn selja þennan hluta í söfnum.“ Fasteignamarkaðurinn á Suðurnesjum hefur tekið vel við sér að undanförnu, að sögn Gunnhildar, og hefur sjóðurinn selt mikið af eignum sínum á svæðinu. „Salan verður því væntanlega áfram góð í stökum eignum. Við finnum einnig fyrir því að leigufyrirtæki horfa til framtíðar með leigustarfsemi á Suðurnesjum,“ segir hún. Í dag á Íbúðalánasjóður 498 eignir á Suðurnesjum en þegar mest lét voru þær um 900. Af þessum 498 eignum hafa 300 verið skráðar á faseignasölum til sölu og 194 eru í útleigu. Leigufélagið Klettur ehf., sem er sjálfstætt félag í eigu Íbúðalánasjóðs, á 75 eignir til viðbótar á Suðurnesjum og eru þær í útleigu. Síðustu 12 mánuði hefur sala eigna sjóðsins á Suðurnesjum gengið sérstaklega vel. Frá árinu 2008 og til 1. nóvember síðastliðinn hefur sjóðurinn selt 738 eignir og hefur mestur hluti þeirra verið seldur á árunum 2014 og 2015, eða 579 eignir. Af þessum 579 eignum voru 236 seldar í söfnum.
markhönnun ehf
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER • 44. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR
A D G R A I R K S N DA 50%
AFSLÁTTUR
HAMBORGARHRYGGUR
39%
1.097
30%
AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTTUR
KR KG
40%
VERÐ ÁÐUR 1.998 KR/KG
AFSLÁTTUR
KR KG
Kiddi í Hjálmum fórnaði Costello á framrúðuna
195
KR KG
KR KG
VERÐ ÁÐUR 3.998 KR/KG
2.999
KR KG
VERÐ ÁÐUR 829 KR/KG
497
KR KG
MERRILD KAFFI 500 G VERÐ ÁÐUR 729 KR/PK
ANANAS DEL MONTE VERÐ ÁÐUR 389 KR/KG
998
FERSKUR GRÍSABÓGUR
GRÍSALUNDIR
1.399
VERÐ ÁÐUR 1.996 KR/KG
FERSKT LAMBA PRIME
VERÐ ÁÐUR 1.798 KR/KG
AFSLÁTTUR
BAYONESSKINKA
50%
AFSLÁTTUR
699
ANTON BERG STANGIR
149
KR PK
KR STK
– „Geisladiskurinn er ekki dauður“ X„G X ei sl a d i sku r i n n er ek k i dauður,“ sagði tónlistarmaðurinn Guðmundur Kristinn Jónsson, Kiddi í Hjálmum, nú í vikunni. Hann þurfti eins og svo margir aðrir að skafa einn frostkaldan morgun. Eins og svo margir aðrir á Kiddi ekki rúðusköfu. Hann dó ekki ráðalaus og gat án vandræða dregið fram forláta geisladisk með Costello sem fékk það hlutverk að verða rúðuskafa þann morguninn.
10%
AFSL Á
TTU
KIMS SNAKK
R
Tilboðin gilda 5. – 15. nóvember 2015
netto.is | Mjódd · Salavegur · Búðakór· Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |
JOLLY COLA 33 CL
99
KR STK