Skip to main content

24 tbl 2016

Page 1

• fimmtudagurinn 16. júní 2016 • 24. tölublað • 37. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Vantar um 10 tonn af gúmmíkurli í Reykjaneshöllina n Við úttekt á gervigrasinu í Reykjaneshöll kom í ljós að það vantaði um það bil 10 tonn af gúmmíkurli í grasið. Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt fjárveitingu upp á rúmar 2,3 milljónir króna sem verður nýtt til viðhalds á gervigrasinu. „Það er mikilvægt upp á viðhald gervigrassins að bæta í það gúmmíi reglulega en því hefur ekki verið sinnt sem skyldi frá því það var lagt,“ segir Helgi Arnarson sviðsstjóri hjá Reykjanesbæ. Helgi segir að gera þurfi ráð fyrir því í rekstri Reykjaneshallar að reglulega þurfi að bæta gúmmíkurli í gervigrasið. „Því hefur stundum verið haldið fram að það þurfi ekkert viðhald á gervigras, en það er mikill misskilningur,“ segir Helgi.

Frábæri ferðafélaginn Keflvíkingurinn Inga Ósk Ólafsdóttir hefur gengt sannkölluðu draumastarfi síðustu mánuði, þar sem hún ferðast vítt og breitt um Ísland með ferðamönnum og sýnir þeim hvað land og þjóð hafa upp á að bjóða. Inga segir að þeir sem upplifa svona ferðir með heimafólki sjái mun meira en hinn almenni ferðamaður gerir í stuttu stoppi. Ferðamennirnir eru svo gjarnan æstir í að segja frá upplifun sinni og þannig breiðist hróður Íslands út skemmtilegan hátt. Sjá viðtal við Ingu á bls. 12.

SEXHUNDRUÐ NÝIR SUÐURNESJAMENN ●●Íbúum fjölgar ört með batnandi hag í öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjum

Íbúum á Suðurnesjum hefur fjölgað töluvert það sem af er ári. Hlutfallslega hefur íbúum fjölgað mest í Vogum eða um 3,6 prósent. Flestir nýir Suðurnesjamenn hafa sest að í Reykjanesbæ, eða 486. Í þeim fjölda er aðeins hluti þess fólks sem nýlega settist að á Ásbrú

vegna starfa við Keflavíkurflugvöll. Töluverð fjölgun hefur einnig orðið í öðrum bæjarfélögum á svæðinu. Fulltrúar bæjaryfirvalda í sveitarfélögunum á Suðurnesjum eru sammála um að helstu ástæður fólks-

fjölgunarinnar séu góðar horfur í atvinnumálum og hagstætt verð á húsnæði, miðað við á höfuðborgarsvæðinu. Reykjanesbær og Grindavík hafa fundið fyrir vaxtarverkjum vegna íbúafjölgunarinnar þar sem þörf hefur verið á fleiri leikskólaplássum. Þá er á

stefnuskránni að byggja nýjan grunnskóla í Innri Njarðvík. Allir fagna fjölguninni enda aukast útsvarstekjurnar og meira líf færist í bæjarfélögin með fleira fólki. Nánar er fjallað um málið á bls. 10.

Vilja ljúka við tvöföldun á Reykjanesbraut

FÍTON / SÍA

Stefnt er að því að klára tvöföldun Reykjanesbrautar alla leið að flugstöðinni.

einföld reiknivél á ebox.is

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

n Brýnt er að forgangsraða verkefnum þannig að umferðaröryggi sé í forgrunni og horfa til þeirra vega þar sem bæta þarf umferðaröryggi. Á umferðarmestu vegunum er ástandið orðið slæmt og hættulegir vegakaflar, meðal annars á Grindavíkurvegi, að því er kemur fram í nefndaráliti frá Umhverfis- og samgöngunefnd alþingis um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun næstu fjögurra ára. Í nefndarálitinu kemur fram að Grindavíkurvegur sé afar fjölfarinn vegna Bláa lónsins og aukinna umsvifa í sjávarútvegi í Grindavík. Í nefndarálitinu kemur jafnframt fram að með mikilli fyrirhugaðri uppbyggingu á Miðnesheiði og í tengslum við Keflavíkurflugvöll þurfi að huga að uppbyggingu nauðsynlegra innviða í nágrenni vallarins, klára tvöföldun

Reykjanesbrautar alla leið að flugstöðinni auk annarra vega í kringum svæðið svo umferðarflæði verði greitt og jafnframt gætt að öryggismálum. Í nokkrum höfnum eru uppi áætlanir um framkvæmdir sem ríkið á að taka þátt í kostnaði við á grundvelli hafnalaga. Í nefndarálitinu kemur fram að í nokkru samræmi við þær breytingar sem meirihluti nefndarinnar lagði til á síðasta þingi hafi framkvæmdum í Grindavíkurhöfn verið flýtt en fjárveitingar nægja þó ekki til að klára framkvæmdir í höfninni á tímabilinu. Nefndin leggur til nokkra aukningu til endurnýjunar stálþils en umsvif í höfninni hafa aukist nokkuð síðustu missiri. Lagt er til að til hafnarinnar í Grindavík verði veitt 136 milljónum króna árið 2017 og 30 milljónum króna árið 2018.


2

VÍKURFRÉTTIR

Isavia ber að afhenda Kaffitári útboðsgögn

fimmtudagur 16. júní 2016

Tómas Eiríksson með flösku af Öldu, nýjum heilsudrykk frá Cod– landi. VF-mynd: Hilmar Bragi

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál þess efnis að Isavia beri að afhenda Kaffitári útboðsgögn vegna leigu á veitingarými í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Í útboði á rými í flugstöðinni tók Kaffitár þátt en fékk því ekki úthlutað. Fyrirtækið krafðist þess í kjölfarið að fá að sjá niðurstöður og rökstuðning Isavia fyrir vali á öðrum fyrirtækjum. Í tilkynningu frá Isavia segir að félagið hafi talið nauðsynlegt að dómstólar myndu skera úr um það hvaða gögn teljist viðkvæm fjárhags- og viðskiptagögn í skilningi upplýsingalaga. Isavia hafi ekki talið rétt að birta viðkvæm viðskiptagögn fyrirtækjanna án dómsúrskurðar. Að mati Isavia er mikilvægt að niðurstaða hafi fengist í héraðsdómi en telur þó mikilvægt að hæstiréttur fái málið til efnislegrar meðferðar og endanlegrar niðurstöðu. Gögnin verða því ekki afhent að svo stöddu. Þá segir í tilkynningu Isavia að þær upplýsingar sem þátttakendur í forvalinu veittu í útboðsgögnum séu ólíkar og mun ítarlegri en þær upplýsingar sem bjóðendur í hefðbundnum opinberum útboðum veita.

Nýr heilsudrykkur úr þorskroði Alda er nýr heilsudrykkur sem er væntanlegur í verslanir á næstu dögum. Drykkurinn er þróaður af Codland, sem er fullvinnslufyrirtæki í eigu grindvísku útgerðarfélaganna Vísis og Þorbjarnar. Nýi heilsudrykkurinn inniheldur collagen en það er ein tegund próteins sem við inntöku getur bætt heilsu og hreyfigetu. Það örvar umbrot frumna í brjóski og liðum og stuðlar að endurnýjunarferli í bandvefjum en efnið styður til dæmis vefi í beinum, húð, vöðvum og sinum líkamans. Notkun collagens ýtir jafnframt undir til dæmis stinna og slétta húð. „Það kom upp hugmynd hjá okkur í Codland að nýta það collagen sem við erum að framleiða í ferskan og náttúrulegan drykk. Við höfum verið að búa til collagen úr

þorskroði og þróa það áfram og nú erum við komin með þessa framleiðslu í hendurnar, sem er þessi frábæri heilsudrykkur, Alda,“ segir Tómas Eiríksson hjá Codlandi. Codland hefur unnið að drykknum í samstarfi við brugghúsið Steðja í Borgarfirði. Drykkurinn hefur verið til sölu á veitingastaðnum Hjá Höllu í Grindavík að undanförnu en er væntanlegur í verslanir á næstu dögum. Alda er ferskur límonaðidrykkur og blandaður með collagen. Hann er jafnframt sykurlaus og því góður heilsudrykkur. Tómas vonast því til að drykkurinn verði staðsettur hjá annarri heilsuvöru í verslunum en ekki hjá gosdrykkjum. Nánar er fjallað um nýja drykkinn í Sjónvarpi Víkurfrétta sem er á dagskrá ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld, klukkan 21:30.

ÓSKUM AÐ RÁÐA MATSVEIN EÐA MATRÁÐ

Fasteignamat á Suðurnesjum hækkar um 6,8 prósent ■■Heildarfasteignamat á Suðurnesjum hækkar um 6,8 prósent fyrir árið 2017 samkvæmt frétt á vef Þjóðskrár. Á landinu öllu hækkar fasteignamat um 7,8 prósent. Matið á Vesturlandi hækkar um 5,8 prósent, á Vestfjörðum um 6,9 prósent, um 0,2 prósent á Norðurlandi vestra, 5,7 prósent á Norðurlandi eystra, 5,6 prósent á Austurlandi og 4,8 prósent á Suðurlandi. Hækkunin á höfuðborgarsvæðinu er 8,8 prósent á milli ára. Fasteignamatið byggir á upplýsingum úr þinglýstum kaupsamningum auk fjölmargra annarra þátta sem hafa áhrif á verðmæti fasteigna. Nýja fasteignamatið miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2016. Það tekur gildi 31. desember 2016 og gildir fyrir árið 2017.

Vekja athygli á slæmri húsnæðisaðstöðu tónlistarskóla í Garði ■■Kennarar við Tónlistarskólann í Garði hafa sent bæjaryfirvöldum í Sveitarfélaginu Garði erindi þar sem þeir vekja athygli á slæmri húsnæðisaðstöðu tónlistarskólans og brýnni þörf á úrbótum. Bæjarráð Garðs tók erindið fyrir á fundi sínum fyrir helgi. Í gögnum bæjarráðs kemur fram að kostnaðargreining á nokkrum mögulegum kostum fyrir nýtt eða endurbætt húsnæði tónlistarskólans er í vinnslu hjá skipulags- og byggingarsviði bæjarins og ættu niðurstöður að liggja fyrir fljótlega.

Matsveinn eða matráður óskast í 100% starf við Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá 8. ágúst 2016. Laun eru samkvæmt stofnanasamningi skólans við hlutaðeigandi stéttarfélag. Í anda heilsueflandi framhaldsskóla er unnið eftir ráðleggingum og markmiðum Landlæknisembættisins hvað varðar hollustu og næringargildi matarins. Mötuneytið er ætlað bæði nemendum og starfsfólki. Nemendur skólans eru um 1000 og starfsmenn eru tæplega 100. Í starfinu felst meðal annars að sjá um: Rekstur mötuneytis skólans, matseld og frágang, innkaup og móttöku matvara, kaffiveitingar á fundum í samvinnu og í samráði við skólastjórnendur ofl. Auk viðeigandi menntunar og/eða reynslu er sóst eftir starfsmanni sem hefur til að bera góða samskiptahæfni, frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og hefur áhuga á að vinna með ungu fólki. Umsókn með upplýsingum um menntun og starfsreynslu skal skila í tölvupósti til skólameistara á netfangið kras@fss.is eigi síðar en 27. júní 2016. Nánari upplýsingar má fá í síma 421-3100 eða í tölvupósti hjá Kristjáni Ásmundssyni skólameistara, kras@fss.is og Guðlaugu Pálsdóttur aðstoðarskólameistara, gp@fss.is. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Skólameistari

255 án atvinnu á Suðurnesjum ●●12 án atvinnu í Sveitarfélaginu Garði ■■Í maí 2016 voru alls 255 atvinnuleitendur á Suðurnesjum. Þar af voru 12 í Garði, segir í gögnum bæjarráðs Sveitarfélagsins Garðs. Það samsvarar 1,5 prósent atvinnuleysi í sveitarfélaginu. Atvinnulausum hefur fækkað verulega á undanförnum mánuðum og lýsir bæjarráð ánægju með þá jákvæðu þróun.


G-TEC FYRIR NÁTTÚRUNA OG VESKIÐ ŠKODA Octavia G-TEC verð frá 3.490.000 kr.

Þú kemst lengra en borgar minna Ef skynsemin réði værum við öll á ŠKODA Octavia G-TEC. Í honum samtvinnast fegurð, kraftur og virðing fyrir umhverfinu. G-TEC sameinar kosti metans og bensíns; þú nýtir íslenska orku og lækkar eldsneytiskostnað um allt að 35%. Með metantank og 50 lítra bensíntank kemstu ótrúlega langt án þess að fylla á og svo færðu líka frítt í stæði. Komdu og reynsluaktu ŠKODA Octavia G-TEC.

HEKLA · Njarðarbraut 13 · Reykjanesbæ · Sími 590 5090 · heklarnb.is

www.skoda.is


4

fimmtudagur 16. júní 2016

markhönnun ehf

VÍKURFRÉTTIR

LAMBALÆRI FERSKT Í SALT & PIPAR

1.392 ÁÐUR 1.698 KR/KG

-30%

-31%

GRÍSALUNDIR NEW YORK

1.889

LAMBALÆRISSNEIÐAR BLANDAÐAR

1.973

-31%

ÁÐUR 2.860 KR/KG

-20%

NETTÓ KJÚKLINGUR HEILL

679

ÁÐUR 2.698 KR/KG

ÁÐUR 849 KR/KG

GRÍSAHNAKKI PORK ROAST

PÍTUBUFF M/BRAUÐI 6 X 60 G

1.793

-20%

ÁÐUR 2.598 KR/KG

1.278 ÁÐUR 1.598 KR/PK

H

-30%

GRÍSAPOTTRÉTTUR Í SVEPPASÓSU

1.761 ÁÐUR 2.515 KR/KG

-20%

KJÚKLINGABORGARI M/BRAUÐI

478 ÁÐUR 595 KR/PK

-30%

LAMBASNITSEL Í RASPI

2.222 ÁÐUR 3.174 KR/KG

Tilboðin gilda 16. – 19. júní 2016 | www.netto.is Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


-25%

-50%

PRÓTEINBRAUÐ MINNI SYKUR

PRÓTEINBRAUÐ LKL

ÁÐUR 398 KR/STK

ÁÐUR 549 KR/STK

299

384

-30%

LB HAFRABRAUÐ LÍFRÆNT

KNORR BOLLASÚPUR

384

249

ÁÐUR 549 KR/STK

JARÐABER 250 G

MARZ SNACKSIZE 4 Í PK - 146 G

249

299

ÁÐUR 498 KR/PK

ÁÐUR 349 KR/PK

COOP MAÍSSTÖNGLAR 2 STK - 400 G

LÍFRÆN BER 225 G HINDBER

LÍFRÆN BER 225 G BLÁBER/JARÐARBER

259

399

299

ÁÐUR 279 KR/PK

ÁÐUR 498 KR/PK

ÁÐUR 399 KR/PK

-21%

SKITTLES ÁVAXTAHLAUP 174 G

299 ÁÐUR 379 KR/PK

-28%

X-TRA HVÍTLAUKSBRAUÐ 2 STK

179 ÁÐUR 249 KR/PK

Hágæða hárvörur - verð frá 499 kr

-20%

PALMOLIVE FROÐUSÁPUR JASMINE/KIDS/RASPBERRY

399 ÁÐUR 499 KR/STK

Hefðbundinn opnunartími 17. júní Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss


6

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 16. júní 2016

RITSTJÓRNARPISTILL Eyþór Sæmundsson

Lítum okkur nær Það væri ekki amalegt að vinna við það að ferðast um landið. Fá að þeysast um á snjósleða upp á jökli, skella sér á sjóstöng eða baða sig í leyni lóni suður á landi. Borða á bestu stöðum landins og hitta áhugavert og framandi fólk. Þetta fær Keflvíkingurinn Inga Ósk að upplifa sem ferðafélagi, eða travel buddy, í vinnu sinni hjá Icelandair. Ég ræddi við Ingu um ferðalög hennar vítt og breitt um landið. Margt áhugavert bar á góma í spjalli okkar sem snerist hvað mest um Suðurnesin. Við vorum bæði sammála um það að hér leynast margar náttúruperlur sem enn á eftir að uppgötva. Það á jafnt við um útlendingana sem hingað koma og okkur sjálf, heimafólkið. Ég hef verið duglegur að taka rúnt út að Reykjanesvita og Gunnuhver undanfarin ár. Ég verð á ferðum mínum var við sívaxandi straum ferðamanna á þessum stöðum og það bregst ekki núorðið að maður mæti rútu á leiðinni. Það styttist líklega í að krökkt verði af ferðamönnum á þessum stöðum. Ég fór með ungan heimamann í myndatöku við Reykjanesvita í vetur og sá hafði aldrei komið þangað áður. Það þótti mér furðulegt að heyra. Mig grunar þó að margir Suðurnesjamenn hafi ekki alveg kannað svæðið til fulls. Ég á alveg helling eftir að sjá sjálfur. Þegar ég fékk bílpróf á síðustu öld þá var stundum tekinn rúntur að Reykjanesvita. Það þótti mikið ævintýri enda nóg að sjá. Ég er með hinn fullkomna Suðurnesjarúnt fyrir ykkur. Fyrst skal heimasækja Hafnirnar, sem búa yfir einhverjum sveitasjarma sem erfitt er að útskýra. Því næst er það Sandvík sem býr yfir einstakri náttúrufegurð. Gunnuhver og Reykjanesviti eru skammt undan en þar er magnað að horfa yfir hafið og klettana og fá náttúruöflin beint í æð. Frá þessum stöðum er svo hægt að klára hringinn til Grindavíkur og enda í kaffibolla á Bryggjunni. Ef fólk er svo á leið austur fyrir fjall, í guðanna bænum prófið þá að taka Suðurstrandarveginn.

VF.IS

Áhugasamir flugmenn framtíðarinnar ●●Fjöldi ungmenna kynnti sér flugnám í Flugbúðum Keilis

TÖLVUNNI

SNJALLSÍMANUM

SPJALDTÖLVUNNI

Í NÝJUM FÖTUM

FYLGSTU MEÐ Í...

DRIVE ryk- og blautsugur

„Þetta eru ungir krakkar en það er alveg ótrúlegt hvað þau vita mikið um flug,“ segir Heimir Snær Heimisson, þjálfunarstjóri hjá Keili og umsjónarmaður Flugbúða Keilis sem fóru fram í vikunni. Í búðunum gefst ungu fólki kostur á að kynna sér ýmsar hliðar náms sem tengist flugi. Heimir segir vikuna hafa verið virkilega skemmtilega. „Það er búið að vera algjörlega frábært hjá okkur í vikunni. Þau eru alltaf svo áhugasöm um flugið og spyrja margra spurninga sem maður er mjög hissa á,“ segir hann.

Flugbúðirnar í ár stóðu í fjóra daga, frá 13. til 16. júní. Á dagskránni var meðal annars heimsókn í flugskýli Icelandair, ferð á Sléttuna þar sem krakkarnir skoðuðu og fræddust um fisflugvélar, flugvirki, flugumferðarstjóri og flugmaður komu í heimsókn og sögðu frá störfum sínum, og haldnar voru kynningar á ýmsu tengdu flugi. Þá fengu allir nemendur að fara í flughermi hjá Keili. Nemendur komu víða að, til að mynda frá Egilsstöðum og Laugum. Flugbúðirnar hafa verið haldnar reglulega í nokkur ár og segir Heimir ekkert lát á áhuga unga fólksins á flugi.

Thelma Rakel Grétarsdóttir og Þorsteinn Karl Arnarsson voru meðal nemenda í flugbúðum Keilis í ár. Thelma segir það hafa verið mjög skemmtilegt að taka þátt í flugbúðunum og þá sérstaklega að skoða skýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Það hefur lengi verið draumur hennar að verða flugmaður. Þorsteinn er 11 ára, alveg að verða 12, og var mættur í flugbúðirnar annað árið í röð. „Það var svo gaman í fyrra að ég varð að koma aftur. Það er svo margt skemmtilegt að gerast hérna,“ segir Þorsteinn sem er harðákveðinn í að verða flugmaður í framtíðinni.

Drive ZD10-50L Ryk- & blautsuga 1000W, 50 lítra

25.990 Drive ZD98-3B Ryk- & blautsuga 3000W, 3 mótorar 90 lítrar, PP vatnstankur

48.990

Hópurinn kom víða við á stöðum tengdum flugi. Á myndinni eru þau við skýli Fisfélagsins Sléttunnar.

Drive ZD90A-20L Ryk- & blautsuga, 1400W, 20 lítra rafmagns innstunga

14.990 Drive ZD98A-2B Ryk- & blautsuga, 2000W, 70 lítra

39.990 Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ

Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

Krakkarnir voru áhugasamir um flugstarfsemina. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom í heimsókn í flugbúðirnar.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.


1Ís0lens0kt%

Pylsa + brauð

1y0 lsur

ungnautakjöt

68

P

kr/stk.

598

359 kr. pk.

159

Bónus Vínarpylsur 485 g,10 stk.

Bónus Pylsubrauð 260 g, 5 stk.

kr. 4x80 g

Íslandsnaut Ungnautaborgarar 4x80 g

kr. pk.

GOTT VERÐ Í BÓNUS

159 kr. 4 stk.

198

Bónus Hamborgarabrauð Með eða án sesamfræja

Bónus Hamborgarasósa 300 ml

kr. 300 ml

198

59

kr. 200 g

Floridana Heilsusafi 250 ml

ES Steiktur Laukur 200 g

safi

Íslenski Fáninn 50x70 cm

198 kr. stk.

17. júni Opið í öllu m

11-18

Brjóstsykur Snuð 70 g, margar teg.

kr. stk.

Íslenski Fáninn 30x46 cm

98

kr. 20 g

Candyfloss 20 g

95

verslunum

kr. stk.

98

kr. 250 ml

100%

1,5L

0,5L

kr. 250 ml

59

kr. 500 ml

98

198

ES Orkudrykkur 250 ml, 2 teg.

Egils Appelsín 500 ml

Coca Cola 1,5 l

kr. 1,5 l

Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 19. júní eða meðan birgðir endast


8

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 16. júní 2016

Fjölmennasta útskriftarár Keilis frá upphafi Keilir útskrifaði 163 nemendur við hátíðlega athöfn á Ásbrú síðasta föstudag. Við athöfnina brautskráðust nemendur úr Háskólabrú, Íþróttaakademíu og Flugakademíu, auk nemenda í leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku á vegum Thompson Rivers University og Keilis.

Með útskriftinni hafa 267 nemendur lokið námi frá skólum Keilis á árinu og stefnir í að þeir verði orðnir rúmlega 300 talsins í sumar, þar sem enn á eftir að brautskrá nemendur af verk- og raungreinadeild Háskólabrúar Keilis, auk nemenda í tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis. Aldrei hafa jafn margir einstaklingar lokið námi í Keili á einu ári síðan skólinn hóf starfsemi sína árið 2007. Háskólabrú Keilis útskrifaði í allt 60 nemendur úr þremur deildum, þar af sjö fjarnámsnemendur. Soffía Waage Árnadóttir, forstöðumaður Háskólabrúar, flutti ávarp. Dúx var Erna Björt Árnadóttir með 9,5 í meðaleinkunn. Fékk hún bók frá Íslandsbanka og lesbretti frá Keili sem viðurkenningu fyrir námsárangur. Rósa Björk

Ágústsdóttir, nemandi við félagsvísinda- og lagadeild, flutti ræðu útskriftarnema. Með útskriftinni hafa samtals 1.403 nemendur útskrifast úr Háskólabrú Keilis og hafa lang flestir þeirra haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis. Flugakademía Keilis útskrifaði 27 atvinnuflugmannsnemendur. Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíunnar, flutti ávarp. Dúx var Kolbeinn Ísak Hilmarsson með 9,77 í meðaleinkunn, en það er næst hæsta einkunn úr atvinnuflugmannsnámi Keilis frá upphafi. Kolbeinn fékk gjafabréf frá WOWair og bók frá Icelandair. Ræðu útskriftarnema flutti Axel C.Thimell.

58 nemendur útskrifuðust sem ÍAK þjálfarar úr Íþróttaakademíu Keilis, 50 einkaþjálfarar og átta styrktarþjálfarar. Arnar Hafsteinsson, forstöðumaður Íþróttaakademíu Keilis, flutti ávarp. Tinna Mark Antonsdóttir fékk viðurkenningu fyrir bestan námsárangur í ÍAK einkaþjálfaranámi með 9,8 í meðaleinkunn og Arna Ösp Gunnarsdóttir fyrir

ÍAK styrktarþjálfaranám með 9,25 í meðaleinkunn. Fengu þær gjafabréf í Nike versluninni frá Sporthúsinu í Reykjanesbæ. Þá brautskráðust 18 nemendur úr háskólanámi Thompson Rivers University (TRU) og Keilis í leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku. Ross Cloutier, yfirmaður námsins hjá TRU, flutti ávarp og Fífa Lísa Óskarsdóttir flutti ræðu útskriftarnema. Dúx var Unnur Ósk Unnsteinsdóttir með 8,56 í meðaleinkunn og fékk hún gjöf frá GG sjósport fyrir námsárangur.

Í ræðu sinni velti Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, upp spurningunni um það hvað skipti máli í lífinu og nefndi sérstaklega virðingu fyrir orðum, náttúru, samferðarfólki og sjálfum sér. Þá hvatti hann nemendur til að halda lífi í gleðinni. Samtals hafa nú 2.639 nemendur lokið námi úr deildum Keilis á níu árum. Meðfylgjandi myndir voru teknar við útskriftina sl. föstudag.

LESANDI VIKUNNAR

Spennu- og dramasögur verða helst fyrir valinu Í hverri viku í allt sumar verður valinn Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar. Lesandi vikunnar birtist í Víkurfréttum alla fimmtudaga í sumar. Í lok hvers mánaðar fær einhver einn heppinn lesandi lestrarverðlaun. Allir sem vilja taka þátt eða mæla með lesanda þurfa að skrá sig en það er hægt að gera í afgreiðslu Bókasafnsins eða á heimasíðu safnsins: sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn Lesandi vikunnar að þessu sinni er Ásdís Kjartansdóttir. Ásdís er þroskaþjálfi í Myllubakkaskóla og hún ætlar njóta sumarfrísins á ferðalagi um landið með góða bók við höndina. Hvaða bók ertu að lesa núna? Ég var að byrja á Vertu úlfur eftir Héðinn Unnsteinsson. Hver er þín eftirlætisbók? Me before you eftir Jojo Moyes. Hvernig bækur lestu helst? Spennu- og dramasögur verða helst fyrir valinu. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig?

Þúsund bjartar sólir eftir Khaled Hosseini. Hvaða bók ættu allir að lesa? Það ættu bara allir að vera duglegir að lesa! Hvar finnst þér best að lesa? Uppi í rúmi. Hver er uppáhalds rithöfundurinn þinn? Einar Kárason.

VF.IS Í NÝJUM FÖTUM

FYLGSTU MEÐ Í...

TÖLVUNNI

SNJALLSÍMANUM

SPJALDTÖLVUNNI


Bjarkardalur 2

Um leið og Húsanes óskar nýjum íbúum að Bjarkardal 2 til hamingju með glæsilegt heimili sitt að þá kynnum við næsta verkefni okkar sem verða einstakar lúxusíbúðir að Leirdal 29-37 í Reykjanesbæ

Leirdalur 29-37 Þökkum starfsmönnum okkar og undirverktökum fyrir gott samstarf.

Dalvegi 10-14 / 595 0570 / Parki.is


10

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 16. júní 2016

Vissi ekki að Ísland væri svona

fallegt ●●Ferðafélaginn Inga Ósk er í draumadjobbinu. ●●Ferðafólk frá öllum heimshornum fær „lókal“ upplifun á Reykjanesi.

Síðan í febrúar hefur ferðamönnum staðið til boða að ferðast með starfsfólki Icelandair um landið. Ferðafélaginn (stopover buddy) kynnir þannig land og þjóð fyrir ferðafólkinu og heimsækir áhugaverða staði. Upphaflega voru 12 starfsmenn Icelandair sem tóku þátt en vinsældirnar urðu það miklar að fljótlega voru um 30 starfsmenn sem sinntu verkefninu. Inga hefur verið á ferðinni með túristum allt frá byrjun febrúar og farið í fjölda ferða víða um landið. Hún leggur talsvert upp úr því að sýna fólkinu Reykjanesið en flestir þekkja lítið sem ekkert til svæðisins að hennar sögn. „Megnið

af þessu fólki sem ég hef ferðast með vissi ekkert um Reykjanesið. Það veit enginn hvað má sjá þar,“ segir Inga. Yfirleitt sækir Inga fólkið á Keflavíkurflugvöll og þaðan fer hún yfirleitt rakleiðis rúnt um Reykjanesið. „Þeim finnst Reykjanesið vera náttúruperla sem ekki margir vita af. Flestum finnst miklu meira til Gunnuhvers koma en Geysis. Ég hef farið margar ferðir þangað og þar er upplifunin allt öðruvísi. Ein mynd og málið er búið. Við Gunnuhver er meiri tími til þess að njóta og skoða sig um,“ segir ferðafélaginn Inga. „Ég fer gjarnan til Grindavíkur og þaðan fer ég alltaf Suðurstrandarveginn. Þar er svo ofboðslega fallegt landslag og lítið af bílum. Margir þessir túristar segja við mig að þeir vilji sjá eitthvað öðruvísi og heimsækja jafnvel staði þar sem ekki eru margir ferðamenn og allt krökkt af rútum.“ Aðallega er Inga að ferðast með fólki sem hefur einn dag til umráða á Íslandi og vill sjá sem mest.

Þá fer hún á áhugaverða staði sem heimafólk heimsækir jafnan. Stundum fer hún með blaðamenn í ferðir og þá er jafnan farið í tveggja til þriggja daga ferðir á áhugaverða staði. Hún hefur meðal annars farið í hellaskoðun, að Jökulsárlóni og upp á Langjökul í snjósleðaferð með fjölmiðlafólki. Vilja upplifa hluti sem heimamenn kjósa Inga segir að ferðamennirnir hafi ákaflega gaman af því að vera með heimafólki. Heyra þeirra sögur og upplifun á landinu og gera þá hluti sem heimamenn gera. Inga reynir að komast yfir sem mest á einum degi og jafnan finnst ferðamönnunum að það hafi verið hér í nokkra daga eftir annasaman dag með Ingu. Inga tekur líka upp á því að bjóða fólki heim til sín í mat og hefur það mælst mjög vel fyrir hjá gestunum. Hún hefur eignast vini um allan heim. „Þeim finnst æðislegt að koma heim til mín og fá að borða ekta íslenskan mat,“ segir Inga sem hefur gaman af því að sýna fólki smæð

landsins líka. „Þegar ég er að keyra með þau í Reykjavík þá sýni ég þeim meðal annars hvar Björk á heima eða Vigdís Finnboga. Þeim finnst það svaðalegt og merkilegt, en fyrir okkur er það lítið mál.“ Hvað hefur þú persónulega fengið út úr þessu? „Mig langar bara að fara í leiðsögumanninn,“ segir Inga og hlær. „Ég bara vissi ekki að Ísland væri svona fallegt. Ég er að upplifa þetta með augum útlendingana og sú upplifun er allt öðruvísi. Við erum orðin svo vön þessu öllu að við sjáum þetta ekki orðið. Mér finnst frábært að geta kynnt landið og ég er rosalega stolt af Íslandi.“ Inga segir að þeir sem upplifa svona ferðir með heimafólki sjái mun meira en hinn almenni ferðamaður gerir í stuttu stoppi. Ferðamennirnir eru svo gjarnan æstir í að segja frá upplifun sinni og þannig breiðist hróður Íslands út skemmtilegan hátt.

Lagardere Travel Retail ehf. Sér um rekstur veitingastaða og sælkeraverslunar á Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Markmið fyrirtækisins er að bjóða framúrskarandi þjónustu í lifandi og alþjóðlegu starfsumhverfi. Starfsmenn óskast í fjölbreytt störf. Í boði eru störf í eldhúsi, afgreiðslu og þjónustu. Kokkar, aðstoðarkokkar, kaffibarþjónar og allir þeir sem hafa áhuga á því að vinna í skemmtilegu og fjölbreyttu umhverfi. Við leitum eftir fólki í fullt starf og hlutastarf. Þeir sem hafa áhuga senda inn umsókn á www.ltr.is eða senda á hjordisr@ltr.is

Einnig er laust starf bókara Helstu verkefni: Móttaka og skráning innkaupareikninga. Færsla bókhalds og afstemmingar lánardrottna. Birgðabókhald, s.s. skráning birgða og birgðabreytinga. Kostnaðarútreikningar á birgðum Önnur almenn skrifstofustörf. Hæfniskröfur: Haldbær reynsla af bókhaldsstörfum skilyrði. Góð almenn tölvukunnátta. Skipulögð, talnaglögg/ur, vönduð og nákvæm vinnubrögð. Frumkvæði, skipulagshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum. Reynsla af Navision Ferilsskrá sendist á umsokn@ltr.is PRENTUN.IS

Keflvíkingurinn Inga Ósk Ólafsdóttir hefur gengt sannkölluðu draumastarfi síðustu mánuði, þar sem hún ferðast vítt og breitt um Ísland með ferðamönnum og sýnir þeim hvað land og þjóð hafa upp á að bjóða. Inga er starfsmaður hjá söludeild Icelandair en hún hefur unnið meira og minna í Flugstöðinni frá árinu 1988.


Þjóðhátíðar dagskrá fyrir alla fjölskylduna í Reykjanesbæ 11:00 17.júní hlaup Knattspyrnudeildar UMFN við Stapann Skráning á hlaup.is eða á staðnum. 10km, 5km og skemmtiskokk. 12:30 Hátíðarguðþjónusta í Keflavíkurkirkju Prestur: Sr. Erla Guðmundsdóttir 13:30 Skrúðganga undir stjórn Heiðabúa leggur af stað frá Keflavíkurkirkju. Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leiðir gönguna. 14:00-16:00 Hátíðardagskrá í skrúðgarði Þjóðfáninn dreginn að húni: Jón R. Jóhannsson fyrrv. forstöðumaður Þjóðsöngurinn: Karlakór Keflavíkur Setning: Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar. Ávarp fjallkonu: Ingibjörg Sól Jónsdóttir nýstúdent. Ræða dagsins: Sigurður Eyberg Jóhannesson, umhverfis- og auðlindaverkfræðingur. Skemmtidagskrá á sviði í skrúðgarði Bryn Ballet Akademían SPINKICK Danskompaní Andinn, Mæja jarðarber, Mikki og Lilli, Karíus og Baktus og fleiri félagar úr Leikfélagi Keflavíkur Alda Dís Skemmtun í skrúðgarði Hestateyming Hoppukastali Götuleikhús Leikfélags Keflavíkur Skemmtistöð Taekwondo - kasta pílum í blöðrur, kasta bolta í dósir og henda hringjum á glerflöskur Júdó - þrautabraut, bændaganga Skátar - stígvélakast og pokahlaup

17.júní 2016

Kaffisala 14:30 - Kaffisala Kvenfélags Keflavíkur í Hvammi við Suðurgötu 13:00-17:00 - Kaffisala Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur í Myllubakkaskóla 13:00-17:00 - Kaffisala Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur í Njarðvíkurskóla 19:30-22:00 Skemmtun í Ungmennagarði Fram koma: Jóhanna Ruth Dagný Halla Bryn Ballet Akademían Danskompaní Ungmennagarðurinn opinn fyrir alla, grillaðir sykurpúðar, minigolf-keppni, sápufótbolti (Skráning á fjorheimar.is) og fleiri leikir í garðinum. Söfn og sýningar Rokksafn Íslands, Hljómahöll 11:00-18:00 ókeypis fyrir 16 ára og yngri. Duus Safnahús, menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar 12.00-17.00, fjöldi nýrra sýninga, ókeypis fyrir alla.


12 Íbúum á Suðurnesjum hefur fjölgað töluvert það sem af er ári. Í Vogum hefur íbúum fjölgað hlutfallslega mest en flestir nýju Suðurnesjamennirnir hafa sest að í Reykjanesbæ. Víkurfréttir tóku fulltrúa bæjaryfirvalda í sveitarfélögunum á Suðurnesjum tali og voru þau á einu máli um að góðar atvinnuhorfur væru helsta ástæða þess að svo margir kjósa að flytja til svæðisins. Þá telja þau einnig að hagstætt verð á húsnæði miðað við á höfuðborgarsvæðinu spili inn í þá ákvörðun fólks að setjast að suður með sjó. Víða er þó skortur á litlum íbúðum.

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 16. júní 2016

Íbúum á Suðurnesjum hefur fjölgað um 628 á árinu

Vaxtarverkir en líka hækkandi útsvarstekjur Vogar vel staðsettir Hlutfallslega hefur íbúum fjölgað mest í Vogum eða um 3,6 prósent á árinu. Aðspurður um helstu ástæður íbúafjölgunarinnar segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, að vafalaust séu fyrir því nokkrar ástæður þó svo að þær hafi ekki verið kannaðar til hlítar. „Hér var talsvert af auðu húsnæði, sem var til dæmis í eigu Íbúðalánasjóðs. Það er nú nærri allt komið í notkun. Þá hefur hinn öri vöxtur og hraða uppbygging á Suðurnesjum án efa einnig áhrif, en mikil eftirspurn er eftir vinnuafli, ekki síst á flugvallarsvæðinu.“ Þá segir Ásgeir staðsetningu Voga mjög heppilega mitt á milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins. Aldurssamsetning íbúa í Vogum hefur breyst jafnhliða fjölgun íbúa, að sögn Ásgeirs. Til skamms tíma var óvenju hátt hlutfall íbúa á leikskóla- og grunnskólaaldri, en nú eru ekki lengur jafn margir íbúanna hlutfallslega í þessum aldurshópum og því hefur íbúafjölgunin ekki kallað á stækkun á leik- og grunnskóla í Vogum. Fjölgun íbúa hefur bæði í för með sér auknar skatttekjur en jafnframt kröfu um aukna þjónustu. Að sögn Ásgeirs er Sveitarfélagið Vogar tiltölulega lítil rekstrareining miðað við mörg önnur sveitarfélög og reksturinn því alla jafna viðkvæmur. „Með því að renna styrkari stoðum undir tekjuöflun sveitarfélagsins eflist reksturinn og okkur verður þannig kleift að veita íbúum okkar trausta, vandaða og góða þjónustu.“ Fjölgun kallar á fjárfestingu í innviðum Íbúum í Reykjanesbæ hefur íbúum fjölgað um 486 á árinu eða um 3,19 prósent. Að sögn Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ, er almennt talið gott ef íbúum sveitarfélaga á Íslandi fjölgar um eitt til eitt og hálft prósent á milli ára því að þá sé hægt að efla innviði á eðlilegum hraða. Mikil fjölgun á stuttum tíma geti kallað á talsverða fjárfestingu í nýju skólahúsnæði og öðru. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ finna fyrir því að íbúum er að fjölga og er stefnt að því að byggja nýjan grunnskóla í Innri Njarðvík, Dalsskóla. Þá hefur verið byggt við nokkra leikskóla til að mæta fjölgun meðal yngstu íbúanna. Enn eru laus pláss í leikskólum á Ásbrú en ef áætlanir um áframhaldandi uppbyggingu þar ganga eftir segir Kjartan ljóst að leikskólarnir þar muni fyllast næsta haust. „Við þessu þarf bæjarfélagið að bregðast og við erum meðvituð um það.“ Aðeins hluti þess fólks sem flutti frá útlöndum á dögunum og settist að á Ásbrú vegna starfa á Keflavíkurflugvelli er inni í tölum um fjölgun í

Reykjanesbæ, en ekki allir. Blokkirnar sem fólkið býr í uppfylltu ekki allar skilyrði til að flokkast sem íbúarhúsnæði og er nú verið að bíða eftir staðfestingu frá Mannvirkjastofnun. Þegar staðfestingin verður í höfn mun skráðum íbúum í Reykjanesbæ fjölga enn frekar. Kjartan Már segir ýmsar ástæður fyrir fólksfjölgun á Suðurnesjum um þessar mundir. „Í fyrsta lagi er það mikið framboð af vinnu og þá aðallega í kringum flugstöðina og fleiri staði.“ Þá nefnir Kjartan að margt fólk sem starfi við flug, bæði flugmenn og flugliðar, flytji til Suðurnesja enda sé húsnæðisverðið hagstætt miðað við á höfuðborgarsvæðinu. Grindvíkingar 9% fleiri Í Grindavík hefur íbúum fjölgað um 28, eða um 0,9 prósent, það sem af er ári. Mest var fólksfjölgunin í Grindavík á árunum 2014 og 2015 en síðan í janúar 2014 hefur íbúum þar fjölgað um 266 eða um rúm 9 prósent. Einni leikskóladeild var bætt við leikskólann Laut síðasta haust því að fjölgað hefur í hópi yngstu íbúanna. Í Grindavík er starfandi hópur sem metur þörf fyrir frekari uppbyggingu á leik og/eða grunnskólahúsnæði. Að sögn Róberts Ragnarssonar, bæjarstjóra í Grindavík, vantar dagforeldra í bæinn og hafa ýmsar breytingar verið gerðar til að gera starfið aðlaðandi. Íbúðum í bæjarfélaginu hefur einnig verið að fjölga og þá líka á leigumarkaði. „Okkur vantar hins vegar ennþá 70 til 100 fermetra íbúðir, bæði fyrir yngra og eldra fólk, jafnt til leigu eða sölu,“ segir Róbert.

Fjölgun íbúa á Suðurnesjum það sem af er ári Garður 2,9 % (31 maður)

Grindavík 0,9% (28 manns)

Reykjanesbær 3,19% (486 manns) REYKJANESBÆR

Sandgerði 2,7% (42 manns)

Vogar 3,6% (41 maður) vinalegur bær

Róbert segir ljóst að bæjaryfirvöld finni fyrir vaxtarverkjum þessi misserin en að það sé ekkert sem þau geti ekki tekist á við. „Útsvarsstofninn hjá okkur hefur styrkst mjög mikið undanfarin ár, þannig að rekstur bæjarins er í mjög góðu jafnvægi.“ Í síðasta mánuði var ársreikningur Grindavíkur birtur og var rekstrarafgangur um 216 milljónir. Helstu ástæður fjölgunar íbúa í Grindavík eru mjög gott atvinnuástand, bæði í sjávarútvegi og ferðaþjónustu, að sögn Róberts. „Störfum hefur fjölgað mjög mikið og nú er Bláa lónið orðið stærsti vinnuveitandinn í Grindavík. Þá segir hann skatta og gjöld lægri í Grindavík en víða annars staðar og þjónusta góð og því sæki fólk í bæjarfélagið eftir atvinnu og góðri þjónustu. Líflegri bæjarbragur Í Sandgerði hefur íbúum fjölgað um 2,7 prósent frá áramótum og eru íbúarnir orðnir 1.622 talsins. Þegar mest var voru íbúarnir um 1800 en þeim fækkaði á árunum eftir bankahrun. Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri í Sandgerði, segir fjölgunina þessi misserin fagnaðarefni. „Aðstæður til fjölgunar íbúa eru góðar, hér er allt til staðar og bæjarfélagið þarf ekki að fara í fjárfrek verkefni eða framkvæmdir til að búa sig undir fjölgun íbúa. Hér hefur verið mikið af auðu húsnæði sem nú er smátt og smátt að færast líf í. Auk þess eigum við töluvert af lóðum sem hægt er að byggja á,“ segir Sigrún. Það sé því ljóst að þó að íbúum myndi fjölga umtalsvert í Sandgerði í nánustu framtíð kalli það ekki á framkvæmdir í gatnagerð eða skipulagningu nýrra hverfa. Sigrún segir hins vegar bagalegt hve mikill skortur er á minna húsnæði í bæjarfélag-

inu því eftirspurnin er mikil. Eftirspurn eftir leiguhúsnæði er einnig mikil og framboðið sömuleiðis lítið. Sigrún segir Grunnskólann í Sandgerði rúma mun fleiri nemendur en þar eru núna og að í leikskólanum séu líka rými fyrir fleiri börn. Aðspurð um ástæður fólksfjölgunarinnar, þá segir Sigrún hana í fyrsta lagi skýrast af sterkri stöðu atvinnulífs á svæðinu og þeim fjölda tækifæra sem við blasa. „Ég held líka að sá viðsnúningur sem orðið hefur í rekstri bæjarfélagsins á síðustu árum hafi aukið tiltrú fólks á Sandgerði. Hér er rík áhersla lögð á að á samfélagið sé fjölskylduvænt og þjónusta við íbúana tel ég að sé almennt góð. Við vitum líka að mörgum þykir mikill kostur að búa í minna samfélagi en vera í nálægð við fjölmennari staði eins og höfuðborgarsvæðið.“ Með fjölgun íbúa geta bæjaryfirvöld betur nýtt þá fjárfestingu sem lögð hefur verið í uppbyggingu innviða samfélagsins, að sögn Sigrúnar. Þá fylgi ákveðin hagræðing fjölgun íbúa. „Fleiri einstaklingar standa undir þeim kostnaði sem óhjákvæmilega fylgir rekstri bæjarfélaga. Síðast en ekki síst verður bæjarbragurinn líflegri og skemmtilegri.“ Garðurinn tilbúinn í fjölgun Í Garði hefur íbúum fjölgað um 31 á árinu og eru Garðbúar því orðnir 1.456 talsins. Fjölgunin það sem af er ári er 2,9 prósent. Að sögn Einars Jóns Pálssonar, forseta bæjarstjórnar í Garði, hefur fjölgun íbúa ekki verið stór áskorun fyrir bæjaryfirvöld enn sem komið er enda fór íbúafjöldi í 1.550 á sínum tíma. „Innviðir eru því tilbúnir fyrir þessa fjölgun og þó nokkuð betur og því teljum við ekki þörf á frekari uppbyggingu innviða í bili. Garðurinn er engu að síður tilbúinn að takast á við enn frekari fjölgun enda er skipulagt íbúahverfi klárt, teikning er til af stækkun Gerðaskóla og þá eru nokkur önnur mál í ferli hjá okkur sem mun bæta þjónustu við íbúana,“ segir hann. Að sögn Einars er íbúaþróun í Garði í takti við önnur sveitarfélög á svæðinu og er að stórum hluta afleiðing aukins framboðs á atvinnu. „Þá má einnig nefna að verð á íbúðahúsnæði er mun hagstæðra hér en á höfuðborgarsvæðinu og hafa margar eignir sem voru tómar verið að seljast að undanförnu og er það jákvæð þróun. Þá má ekki gleyma því að í Garðinum er mjög gott að búa, þetta er svona „bær í sveit“ og mjög gott að ala upp börn í svona umhverfi.“ Þá segir hann ljóst að fjölgun íbúa muni styrkja samfélagið og bæta það og væntanlega skila auknum tekjum.


samsungsetrid.is

Tryggðu þér besta sætið með 55” Samsung sjónvarpi

samsung 2016-17 R1-muLTIROOm HÁTaLaRI FYLgIR ÞEssum sJÓnVÖRPum

55” Samsung KS9005T SUHD • ULTRA HD PREMIUM • HDR1000 • 4K • QUANTUM DOT DISPLAY • SMART TV

kr. 479.900,-

Fögnum íþróttasumrinu með nýrri árgerð, 2016-17

SUHD TV samsung 2016-17

SUHD TV samsung 2016-17

55” Samsung KS7005

55” Samsung KS7505

SUHD • ULTRA HD PREMIUM • HDR1000 • 4K • QUANTUM DOT DISPLAY • SMART TV

SUHD • ULTRA HD PREMIUM • HDR1000 • 4K • QUANTUM DOT DISPLAY • SMART TV

kr. 359.900,-

kr. 399.900,-

FYRIR HEIMILIN Í LANDINU

HAFNARgöTU 23 · REYKjANESbæ · SíMI 421-1535

OPNUNARTíMI VIRKA DAgA KL. 10-18. LOKAð LAUgARDAgA í SUMAR.

Greiðslukjör Vaxtalaust í allt að 12 mánuði


14

VÍKURFRÉTTIR

VF.IS

TÖLVUNNI

SNJALLSÍMANUM

fimmtudagur 16. júní 2016

SPJALDTÖLVUNNI

Í NÝJUM FÖTUM

FYLGSTU MEÐ Í...

ATVINNA Arctic Pet ehf óskar eftir að ráða starfsfólk í framleiðslu.

Starfssvið: Hefðbundin framleiðslustörf í verksmiðju fyrirtækisins á Iðngörðum í Garði. Hæfniskröfur: Jákvæðni Samviskusemi Stundvísi Frumkvæði í starfi Umsóknir og ferilskrár sendist á solmundur@arcticpet.com Öllum umsóknum verður svarað

LAUS STÖRF FJÁRMÁLASVIÐ Deildarstjóri launadeildar LEIKSKÓLINN TJARNARSEL Leikskólakennari LEIKSKÓLINN TJARNARSEL Sérkennslustjóri LEIKSKÓLINN HEIÐARSEL Íþróttakennari/-fræðingur Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi /laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.

VIÐBURÐIR HÁTÍÐARDAGSKRÁ 17. JÚNÍ Kl. 12: 30 Hátíðarguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju Kl. 13:30 Skrúðganga frá Keflavíkurkirkju Kl. 14:00 - 16:00 Hátíðardagskrá í skrúðgarði Kl. 19:30 - 22:00 Skemmtun í Ungmennagarði Sjá nánar í heilsíðuauglýsingu á öðrum stað í blaðinu. BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR Safnið er lokað föstudaginn 17. júní en opnar laugardaginn 18. júní kl. 11:00 og er opið til kl. 17:00. Minnum á Sumarlesturinn og að skila þarf bingóspjöldum til að komast í lukkupottinn. Einnig minnum við á Lesanda vikunnar. Sjá nánar á sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn

MANNFÉLAGIÐ í Duus ●●Sumarsýning Listasafns Reykjanesbæjar opnuð

Sumarsýning Listasafns Reykjanesbæjar, sem að þessu sinni ber heitið Mannfélagið, var opnuð á dögunum. Á sýningunni eru verk eftir 21 listamann, aðallega málverk, en einnig er þar að finna ljósmyndaverk og skúlptúr. Elstur þessara listamanna er Ásgrímur Jónsson (1876-1958), en yngstur Aron Reyr (f. 1974). Listamennirnir eiga það sammerkt að vinna með margháttaðar birtingarmyndir mannlegra samskipta, ýmist beint og umbúðalaust eða með táknrænum hætti. Sjónarhorn þeirra getur verið einkalegt, faglegt eða félagslegt. Líta má á þessa sýningu sem eins konar framhald á hinni vinsælu sýningu Kvennaveldið, sem sett var upp í safninu í byrjun árs. Í báðum tilfellum er grennslast fyrir um hlutlæga myndlist á Íslandi, og hvað það er sem höfundar slíkra mynda vilja segja okkur um hugmyndir sínar og viðhorf. Á þessari sýningu fjalla 10 konur og 11 karlmenn um samskiptamáta manneskjunnar og þær aðstæður sem kveikja mannleg samskipti. Flestir listamannanna virðast þeirrar skoðunar að Íslendingar myndi náin tengsl sín á meðal fyrst og fremst gegnum sameiginlega iðju, vinnu eða tómstundir, fremur en brýna tilfinningalega þörf. En sýning af þessu tagi er ekki félagsfræði; fyrst og fremst vekur hún okkur til umhugsunar um tungumál og sýnileika tilfinninganna. Flestar myndanna á sýningunni eru fengnar frá tveimur helstu söfnum

landsins, auk þess sem listamennirnir sjálfir hafa lánað nokkrar myndir sem ekki hafa fyrr komið fyrir almennings sjónir. Á sumarsýningunni eru verk eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur, Aron Reyr, Ásgeir Bjarnþórsson, Ásgrím Jónsson, Baltasar, Barböru Árnason, Birgi Snæbjörn Birgisson, Finn Jónsson, Gunnar Karlsson, Gunnlaug Scheving, Helga Þorgils Friðjónsson, Hlaðgerði írisi, Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur, Karen Agnete Þórarinsson, Karólínu Lárusdóttur, Söru og Svanhildi Vilbergsdætur, Sigríði Melrós Ólafsdóttur, Sigurð Guðmundsson, Stefán Boulter, Tryggva Magnússon og Þórdísi Aðalsteinsdóttur. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson. Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duus Safnahúsum og þar er opið alla daga frá klukkan 12:00 til 17:00.

KJÖRFUNDUR

VEGNA FORSETAKOSNINGA Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM 25. JÚNÍ 2016 Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00 Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, gengið inn frá leikvelli Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna forsetakosninga liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga fram að kjördegi. Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga


SÓLSETURSHÁTÍÐ Í GARÐI 20. TIL 25. JÚNÍ 2016

Allir hjartanlega velkomnir! Skemmtun fyrir alla fjölskylduna

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá! Sjá nánar á www.svgardur.is


16

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 16. júní 2016

16 -14 4 0 - H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A

Spara tíma með Stemmaranum ●●Þróuðu forrit sem flýtir fyrir afstemmingu í bókhaldi „Þetta forrit er í rauninni eins og mjög hraðvirkur yfirstrikunarpenni,“ segir Rúnar Dór Daníelsson, löggildur endurskoðandi hjá Deloitte. Hann, ásamt Ingva Rafni Guðmundssyni, hugbúnaðarsérfræðingi hjá LS Retail og Pálma Ólafi Theodórssyni, viðskiptafræðingi hjá Deloitte, hafa þróað forritið Stemmarinn sem flýtir fyrir afstemmingu í bókhaldi. Þeir Rúnar Dór og Ingvi Rafn eru Suðurnesjamenn, Rúnar Dór úr Garði en búsettur í Reykjanesbæ og Ingvi Rafn úr Reykjanesbæ, búsettur í Reykjavík. Forritið hefur verið í þróun síðan árið 2013 og kom á markað fyrir skömmu. Stemmarann þróuðu þeir á kvöldin og um helgar og síðar kom Deloitte inn í þróunarferlið og á nú 15 prósenta hlut í fyrirtækinu. Að sögn Rúnars hefur Stemmarinn fengið góðar viðtökur. „Fjöldi fyrirtækja er nota forritið á degi hverjum í fastri áskrift og mörg fyrirtæki eru með forritið á reynslu. Við höfum ekki séð neitt sambærilegt, hvorki hér á landi né annars staðar svo það gengur mjög vel að breiða út boðskapinn.“ Rúnar segir það enn mikið tíðkast við afstemmingar í bókhaldi að fólk prenti út yfirlit og stemmi svo af færslu fyrir færslu með yfirstrik-

Á myndinni má sjá hugmyndasmiðina á bak við Stemmarann. Frá vinstri Rúnar Dór Daníelsson, Pálmi Ólafur Theodórsson og Yngvi Rafn Guðmundsson

unarpenna sem sé mjög tímafrekt. „Hjá fjölmörgum fyrirtækjum er töluverðum tíma eytt í afstemmingar og þegar færslufjöldinn er mikill sparar Stemmarinn mikinn tíma.“ Við þróun á Stemmaranum fékk verkefnið eina milljón króna í styrk frá

Uppbyggingarsjóði Suðurnesja. Aðspurður um nafnið Stemmarinn, þá segir Rúnar að Pálmi eigi allan heiðurinn af því. „Það tengja margir nafnið Stemmarinn við gott partý, þetta er ekki alveg það, en næstum því,“ segir Rúnar að lokum.

GARÐMENN

halda sólseturshátíð 23. til 26. júní

Sólseturshátíðin í Garði verður formlega 23. til 26. júní, þó dagskrá hefjist mánudaginn 20. júní í íþróttamiðstöð Garðs með karlakvöldi í sundlaug. Síðan rekur hver viðburðurinn annan alla vikuna. Sólseturshátíð var haldin í fyrsta skipti árið 2005 og er nú árlegur viðburður í Garði. Sólseturshátíðin er fjölskylduhátíð, haldin á Garðskaga við góðar aðstæður, fallegt umhverfi með fjölbreyttri dagskrá. Má þar nefna stuttar gönguferðir, menningar- og sögutengda fræðslu fyrir börn og fullorðna, fjöruferð fyrir börnin, leiki og leiktæki, tónlistaratriði, kveiktur varðeldur og málverkasýningar. Á Garðskaga er góð aðstaða fyrir tjaldbúa, tjaldvagna og húsbíla. Snyrting, rennandi vatn og rafmagn er til staðar, segir á vef Sveitarfélagsins Garðs.

Veljum að búa á Íslandi

Nú gefst þér kostur á að mæta snemma og hafa tímann fyrir þér því innritun hefst nú 2 og 1/2 tíma fyrir flug. Fáðu þér hressingu og kíktu í búðir og njóttu þess að geta tekið lífinu með ró. Fjöldi verslana og veitingastaða bíða þín í betri flugstöð.

Það var engin spurning í mínum huga að kosningaferðalag mitt átti að hefjast í Grindavík og stuttu síðar heimsótti ég Reykjanesbæ. Það fer ekki á milli mála að það býr kraftur í þessum byggðarlögum sem áður byggðu afkomu sína að mestu á sjósókn en stunda nú fjölbreytta atvinnustarfsemi, allt frá ferðaþjónustu til tækniþróunar af ýmsum toga. Ég verð mjög víða vör við jákvæð áhrif uppbyggingar en ég hef líka heyrt á fólki að það er orðið langþreytt á neikvæðni og sundrung og margir telja traust brotið. Þegar efnahagslífið hrundi töpuðust ekki einungis efnisleg verðmæti, samfélagssáttmálinn hrundi í leiðinni. Að mörgu leyti hefur gengið ágætlega að koma efnahagslegum þáttum í samt lag, en vinnan við að græða samfélagssárið er bara rétt að hefjast. Forsetaembættið getur gegnt mikilvægu hlutverki við að leiða samtal um framtíðarsýn Íslands, hvernig samfélagsgerð við viljum byggja upp og standa vörð um og hvaða gildi við ætlum að hafa að leiðarljósi. Heiðarleiki, virðing, réttlæti og jafnrétti eru gildi sem þjóðin valdi sér árið 2009. Við þurfum að tala miklu meira um þessi gildi og við þurfum að sýna þau í verki í daglegum athöfnum. Þannig getum við byggt samfélagssáttmálann upp og

aukið sátt í samfélaginu á ný, þannig getum við grætt sárin og byrjað að skapa aftur traust. Ég hef vaxandi áhyggjur af misskiptingu í landinu, milli þeirra sem eiga mikla fjármuni og litla, milli ólíkra landshluta og misskiptingu tengda uppruna. Ég trúi á jafnrétti fyrir alla. Það Ísland sem ég ólst upp í einkenndist af meira jafnræði. Almennt séð hafði fólk minna af efnislegum gæðum, en tækifærin til að komast til mennta eða sanna sig með vinnusemi voru til staðar. Að sama skapi greip samfélagið þá sem á stuðningi þurftu að halda. Ég heyri því miður allt of oft sögur af því að óvænt veikindi leiði til fjárhagsörðugleika vegna þess kostnaðar sem heilbrigðisþjónusta getur haft í för með sér. Ég heyri því miður allt of oft um skort á búsetuúrræðum fyrir aldraða og að þessi hópur, sem skilað hefur sínu ævistarfi, hafi lítið milli handanna. Ég horfi með aðdáun til starfsmanna í heilbrigðiskerfinu sem vinna afar gott starf þrátt fyrir þröngan stakk, en það er ekki endalaust hægt að treysta á bjartsýnina þegar kemur að því að reka vandaða heilbrigðisþjónustu. Við þurfum að standa vörð um þá samfélagsþjónustu sem sjálfsagt er að íbúar landsins njóti. Það skiptir öllu máli fyrir framtíð Íslands að ungt fólk velji að setjast hér

að. Unga kynslóðin hefur í dag fleiri tækifæri en nokkru sinni fyrr til að nýta þekkingu sína og menntun þvert á landamæri. Það er mikilvægt að þau sjái Ísland sem landið þar sem gott er að búa, eignast fjölskyldu, skapa verðmæti og láta til sín taka. Það er mikilvægt að við byggjum upp samfélag sem styður við ungar fjölskyldur. Til þess að styrkja Ísland er brýnasta verkefnið að byggja upp traust á ný og innleiða þau grunngildi sem við sem þjóð viljum byggja okkar samfélag á. Við stöndum á tímamótum og nú er rík þörf á að sameina og sætta. Ég tel að forsetaembættið geti leitt samtal um framtíðina og það, ásamt aukinni áherslu á góð grunngildi, hjálpi okkur að ná sátt og byggja upp traust. Það er nefnilega þannig að þegar við tölum saman sem manneskjur þá erum við miklu oftar sammála en ósammála. Allavega um þá hluti sem virkilega skipta máli. Við erum nefnilega öll í sama liðinu. Kæru Suðurnesjamenn, ég trúi á samtalið og því langar mig að bjóða ykkur til fundar við mig mánudaginn 20. júní klukkan 20:30, á Nesvöllum. Verið hjartanlega velkomin! Halla Tómasdóttir


fimmtudagur 16. júní 2016

17

VÍKURFRÉTTIR

Íbúar Innri Njarðvíkur hreinsuðu hverfið og grilluðu

Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana

Íbúar Innri Njarðvíkur héldu rusladag í Innri Njarðvík í lok maí. Þá var hreisað upp rusl um allt hverfið og dagsverkið endaði svo með grillveislu við Akurskóla. Meðfylgjandi myndir tóku þeir Sigvaldi Arnar Lárusson og Sigurður B. Magnússon af hressu fólki á öllum aldri sem tók þátt í hreinsunardeginum en hugmyndir eru uppi um að halda daginn árlega síðasta laugardag í maí.

ÁRA 1956 - 2016

Húsasmiðjan fagnar 60 ára afmæli

Úðabyssa

SÚPER AFMÆLISTILBOÐ

Mjúkt grip.

9.990 12.900

5081628

kr

SÚPER AFMÆLISTILBOÐ

1.995 2.670

kr

Garðstóll Kingsbury

kr

26%

kr

Með stillanlegum örmum.

afsláttur

3899088

21% afsláttur

Allt í garðinn í Reykjanesbæ

SÚPER AFMÆLISTILBOÐ

43.900

kr

AUTHOR MATRIX 24”

ft EM áskrilgir fy og bolti or Auth hjólum

18 gíra Shimano Revoshift skipting, afturskipting Shimano TY-21. Álgjarðir, Tektro bremsur 855AL. 3901305

12.995 16.595

kr

kr

Háþrýstidæla C105.6-5

105 bör, 440 l/klst., sjáfvirk ræsing/stöðvun, 5 m slanga. 5254249

lda Mestasoelían pall í Húsa- i n smiðjun

Jotun Akryl Mur, útimálning á stein og múr Silkimött alkalíþolin 100% akrýlmálning, gljástig 7. 7049503-12 SÚPER AFMÆLISTILBOÐ

6.999 8.999 kr

3 ltr

23%

Pallaolía Jotun Treolje

afsláttur

Pallaolía á gagnvarið efni. 7049123-27

3 ltr

SÚPER AFMÆLISTILBOÐ

1.995 2.385 kr

kr

kr

Stjúpur 10 stk. í bakka.

799

kr

1.790 kr

Byggjum á betra verði

w w w. h u s a . i s


18

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 16. júní 2016

Kátir krakkar í kofabyggð Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa,

Héðins Skarphéðinssonar,

húsasmíðameistara, Langholti 2 Reykjanesbæ, sem lést 30. maí á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjá dagdvöl aldraðra í Selinu fyrir frábæra umönnun og alúð. Guð blessi ykkur öll. Bergþóra G. Bergsteinsdóttir, Kristjana B. Héðinsdóttir, Aðalheiður Héðinsdóttir, Skarphéðinn S. Héðinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

Þorsteinn Bjarnason, Eiríkur Hilmarsson, Lynnea Clark,

Kofabyggðin í Grindavík nýtur mikilla vinsælda. Strax við opnun byggingarsvæðisins á mánudag voru mættir þangað um 30 krakkar vopnaðir hömrum og nöglum, tilbúnir til að ráðast í kofabyggingar. Hjalti Steinar Guðmundsson, umsjónarmaður opinna og grænna svæða í Grindavík, hefur kofabyggðina á sinni körfu. Hann átti alls ekki von á þessum fjölda barna í smíðavinnuna og því þurfti mun meira byggingarefni á staðinn en gert var ráð fyrir. Gömul vörubretti eru uppistaðan í byggingarefninu en einnig hefur Hjalti þurft að fara nokkrar ferðir í BYKO í Reykjanesbæ til að taka með alvöru timbur til kofabyggina. Kofabyggðin í Grindavík er hugsuð fyrir krakka sem eru átta ára og eldri en smíðavöllurinn er staðsettur á reit suðvestan megin við Stakkavík. Smíðavöllurinn verður starfræktur 4 daga vikunnar, frá mánudegi til fimmtudags, frá kl. 13:00 til 15:00. Umsjón er í höndum flokkstjóra vinnuskólans. Allt timbur er á staðnum en krakkarnir þurfa sjálf að skaffa bæði verkfæri og nagla.

AUGLÝSING VEGNA KJÖRS FORSETA ÍSLANDS 25. JÚNÍ 2016 Kjörskrá og kjörstaðir í Reykjanesbæ. Kjörskrá í Reykjanesbæ vegna kjörs forseta Íslands sem fram fer þann 25. júní 2016 liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Kjörfundur fyrir íbúa í Innri Njarðvík, Höfnum og Ásbrú er í Akurskóla Kjörfundur fyrir íbúa í Ytri Njarðvík er í Njarðvíkurskóla Kjörfundur fyrir íbúa í Keflavík er í Heiðarskóla Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstaðir opna kl. 09:00 og loka kl. 22:00. Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Heiðarskóla sími 420-4515. Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar


fimmtudagur 16. júní 2016

19

VÍKURFRÉTTIR

Fríhöfnin veitir styrki úr umhverfissjóði í fjórða sinn Þrettán styrkir voru veittir úr Umhverfissjóði Fríhafnarinnar við hátíðlega athöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í síðustu viku. Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri og Bjarklind Sigurðardóttir, sölu- og markaðsstjóri Fríhafnarinnar afhentu styrkina. Þetta er í fjórða skipti sem styrkir eru veittir úr Umhverfissjóðnum. Sjóðurinn var stofnaður í maí árið 2012 með það að markmiði að styrkja verkefni á sviði umhverfisverndar, með áherslu á nærumhverfi Fríhafnarinnar. Tilgangur sjóðsins er að styrkja verkefni sem byggjast á sjálfboðaliðsstarfi eða frumkvæði félagasamtaka eða einstaklinga. Heildarfjárhæð styrkjanna var tvær milljónir og fimm hundruð þúsund krónur. Eftirtaldir aðilar hlutu styrk úr sjóðnum: Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Keflavíkur hlaut styrk til að vinna ötullega áfram við gróðursetningu við æfingarsvæðið fyrir aftan Reykjaneshöllina í Reykjanesbæ. Tilgangur er að fegra umhverfi og mynda skjól. Blái herinn hlaut styrk til vinnu í nýja verkefninu þeirra „Hafskógar“ það er „úr sjó í skóg“ sem gengur út á að aðstoða sveitafélög, fyrirtæki og stofnanir við að hreinsa opin svæði. Eitt tré er gróðursett á móti hverjum 10 kílóum af plasti sem fjarlægð eru af viðkomandi svæði. Allt rusl er flokkað í réttan úrvinnsluflokk. Verndari verkefnisins er frú Vigdís Finnbogadóttir. Golfklúbbur Sandgerðis hlaut styrk vegna hreinsunar á grjótgarði sem

liggur meðfram vellinum ásamt því að gróðursetja plöntur á syðsta hluta vallarsvæðisins. Golfklúbbur Suðurnesja hlaut styrk til áframhaldandi vinnu við uppgræðslu við Leiru, endurbætur á göngustígum og gróðursetningu trjáa.

Hæfingarstöðin, sem flutti í nýtt húsnæði fyrravor, hlaut styrk til að vinna að lóðinni við húsnæðið. Sú vinna snýr að því að setja niður skjólbelti með trjám og matjurtagarð sem nýtist fólkinu. Heiðarskóli býður nemendum valgrein sem byggist á því að byggja upp og laga svæði við gömlu malarnámuna. Þau fá styrk til að gróðursetja plöntur, reisa skýli og búa til göngustíga. Svæðið verður hugsað sem útikennslusvæði og jafnframt útivistasvæði fyrir íbúa Reykjanesbæjar. Heilsuleikskólinn Suðurvellir hlaut styrk til að laga útlit skólalóðar og götumyndar við Suðurgötu með því að laga eldri trjábeð og fjarlægja úr sér vaxin tré ásamt því að gróðursetja rifsog sólberjarunna. Með þessu geta þau bætt inn í dagskrána sína berjatínslu á haustin og fá í leiðinni gott skjól frá runnunum. Knattspyrnudeild UMFN hlaut styrk til að halda áfram með þá vinnu að gróðursetja tré umhverfis íþróttasvæði deildarinnar við Afreksbraut í Reykjanesbæ. Leikskólinn Tjarnarsel hlaut styrk til að vinna áfram í þróunarverkefninu „Áskorun og ævintýri“ sem hófst

árið 2013. Þetta er samstarfsverkefni starfsfólks Tjarnarsels, leikskólabarna og foreldra þeirra. í ár rækta þau berjarunna, ávaxtatré, grænmeti og skapa fallega gróðurreiti á útileiksvæðinu. Lionsklúbbur Njarðvíkur hlaut styrk til áframhaldandi gróðursetningar plantna og hreinsunar á útivistarsvæðinu Paradís við Grænásbrekku. Markmiðið er að byggja Paradísina enn frekar upp til almenningsnota og yndisauka.

Myndir frá afhendingu styrkjanna. Bjarklind Sigurðardóttir, sölu- og markaðsstjóri og Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar lengst til vinstri og hægri með nokkrum styrkþegum við afhendingu þeirra.

Skógfell, skógræktar- og landgræðslufélag Vatnsleysustrandarhrepps, hlaut styrk til flutnings á húsi sem veitir mönnum vinnuaðstöðu. Húsið verður staðsett á Háabjalla. Skipta þarf um jarðveg og steypa undirstöður svo hægt sé að tryggja aðkomu flutningabíls til að koma húsinu fyrir. Skógræktarfélag Grindavíkur hlaut styrk til uppsetningar skilta sem sýna helstu fuglategundir sem hafast við að staðaldri í Selskógi. Þetta er gert til að vekja athygli gesta skógarins á fuglalífinu. Ungmennafélagið Þróttur hlaut styrk til áframhaldandi vinnu við trjárækt á Vogabæjarvelli til að mynda skjól fyrir komandi kynslóðir bæjarbúa. Starfið hófst sumarið 2014. Fríhöfnin óskar styrkþegum til hamingju og þakkar þeim fyrir þann dugnað og elju sem þeir sýna í verkum sínum, oft og tíðum í sjálfboðavinnu, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

17. JÚNÍ KAFFI KKD UMFN 2016

NJARÐVÍKURSKÓLA

FÖSTUDAGINN 17. JÚNÍ KL. 13:00 - 17:00. 1.500 KR. FYRIR FULLORÐNA // 500 KR. FYRIR BÖRN


20

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 16. júní 2016

tillaga að starfsleyfi FYRIR MÓTTÖKU-, FLOKKUNAR- OG SORPBRENNSLUSTÖÐ

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Sorpeyðingarstöð Suðurnesja fyrir meðferð og förgun úrgangsefna á athafnasvæði sorpbrennslustöðvarinnar í Helguvík og geymsluhúsnæði að Fitjabraut 10, Reykjanesbæ. Heimilt er að taka á móti allt að 25.000 tonnum af úrgangi á ári. Starfsleyfistillagan miðast við sambærilega starfssemi og verið hefur hjá rekstraraðila. Helstu breytingar frá eldra starfsleyfi eru þær að heimild til brennslu sóttmengaðs úrgangs var aukin úr 300 tonnum í 400 tonn og heimild til brennslu spilliefna var aukin úr 800 tonnum í 1.000 tonn. Tillagan mun liggja frammi á skrifstofu Reykjanesbæjar á tímabilinu 13. júní til 8. ágúst 2016. Á vef Umhverfisstofnunar má finna auglýsta tillögu og umsóknargögn. Umhverfisstofnun hefur ekki áform um að halda almennan kynningarfund um tillöguna á auglýsingatíma, en mun endurskoða þá ákvörðun ef eftir því verður óskað. Frestur til að gera athugasemdir um starfsleyfistillöguna er til 8. ágúst 2016.

Á 160 km hraða á brautinni Fjórhjólaslys og bílveltur við Grindavík

Tólf ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 162 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Hans bíður 150.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í þrjá mánuði og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Þá voru allmargir ökumenn kærðir fyrir brot á stöðvunarskyldu, að leggja ólöglega, nota síma án handfrjáls búnaðar og akstur án öryggisbelta. Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af átta bifreiðum sem ýmist höfðu ekki verið færðar til skoðunar eða voru ótryggðar.

Lögreglan heimsækir heimagistingar

Ferskur sjónvarpsþáttur á vf.is og ÍNN.

Lögreglan á Suðurnesjum mun á næstunni heimsækja aðila sem auglýsa heimagistingu á svæðinu. Erindi lögreglu verður að athuga hvort tilskilin leyfi séu til staðar sem og bókhaldsgögn yfir reksturinn. Lögreglan vill fylgjast með því að þeir sem bjóða upp á heimagistingu í umdæminu fari að lögum og reglum þar að lútandi. Vill lögreglan hvetja þá aðila sem ekki hafa orðið sér úti um leyfi að gera það hið snarasta.

Flytja þurfti erlenda konu, sem féll af fjólhjóli í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina, undir læknishendur þar sem hún kenndi sér meins eftir byltuna. Óhappið varð með þeim hætti að konan sat fyrir aftan eiginmann sinn sem ók hjólinu. Á Nesvegi, rétt vestan við Grindavík, ók hann á stein og við það missti konan jafnvægið og féll til jarðar. Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilsugæslu Suðurnesja en mun ekki hafa slasast alvarlega. Nokkuð hefur verið um slys í umferðinni í umdæminu á undanförnum dögum. Má þar nefna tvær bílveltur, aðra vestan við Strandakirkju og hina rétt við Bót í Grindavík. Þrennt var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en meiðsl reyndust ekki vera alvarleg.

Við höfum aukið leikfangaúrvalið á pósthúsinu svo nú er það stútfullt af skemmtilegheitum. Þú finnur pakkann hjá okkur.

FÓTBOLTAMYNDIR

LEGO

R

SUMARVÖRUR

RU

PLAYMO

VÖ

PAKKAR

AR

ÝJ

N

SKEMMTILEGRI


SJÓNVARP • Fimmtudagurinn 16. júní 2016 • kl. 21:20 • ÍNN • vf.is

IKU

VIKULEGUR

MAGASÍNÞÁTTUR

FRÁ

EFNI ÞÁTTARINS Í ÞESSARI V SUÐURNESJUM

Í

SJÓNVARPI

Viltu auglýsa í Sjónvarpi Víkurfrétta?

Sjónvarp Víkurfrétta er vikulegur magasínþáttur frá Suðurnesjum sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni ÍNN og á vef Víkurfrétta. Þátturinn er á dagskrá á fimmtudagskvöldum kl. 21:30. Efnistök þáttarins eru úr menningu, mannlífi og atvinnulífi Suðurnesja. Í hverri viku leggjum við upp með að bjóða áhorfendum upp á jákvæðan og skemmtilegan sjónvarpsþátt með fjölbreyttum efnistökum. Fyrirtækjum og félagasamtökum á Suðurnesjum stendur til boða að kaupa auglýsingapláss inni í þættinum en auglýsingar eru fyrir og eftir þáttinn og einnig í hléi í miðjum þætti. Nánari upplýsingar um auglýsingar veitir auglýsingadeild Víkurfrétta. Hafa má samband með tölvupósti á fusi@vf.is eða í síma 421 0001.

Hakkit er heitasti klúbburinn í bænum Spánverjinn Xabier Þór Tejero Landa er einn af fjölmörgum frumkvöðlum á Ásbrú. Hann ásamt fleirum reka saman Hak kit í E lde y á Ásbrú. Hakkit er stafræn smiðja eða svokallað gjörðapláss sem er öllum opið. Þar má finna ýmis tæki og tól. Allt frá þrívíddar prentara og leiser skurðavél, til sjónvarpa og tölva sem hafa fundið sér nýtt heimili. Nánar er fjallað um Hakkit í Sjónvarpi Víkurfrétta sem er á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN á fimmtudagskvöld kl. 21:30. Þátturinn er einnig á vef Víkurfrétta, vf.is, í háskerpu.

n Alda er nýr heilsudrykkur sem inniheldur collagen úr þorskroði.

Heilsudrykkur úr roði! l Codland hefur þróað nýjan sykurlausan og próteinríkan heilsudrykk l Svalasti drykkurinn í dag

n Þrívíddarmynd tekin af blaðamanni VF

Alda er nýr heilsudrykkur sem er væntanlegur í verslanir á næstu dögum. Drykkurinn er þróaður af Codland, sem er fullvinnslufyrirtæki í eigu grindvísku útgerðarfélaganna Vísis og Þorbjarnar. Nýi heilsudrykkurinn inniheldur collagen en það er ein tegund próteins sem við inntöku getur bætt heilsu og hreyfigetu. Það örvar umbrot frumna í brjóski og liðum og

stuðlar að endurnýjunarferli í bandvefjum en efnið styður til dæmis vefi í beinum, húð, vöðvum og sinum líkamans. Notkun collagens ýtir jafnframt undir til dæmis stinna og slétta húð. „Það kom upp hugmynd hjá okkur í Codland að nýta það collagen sem við erum að framleiða í ferskan og náttúrulegan drykk. Við höfum verið að búa til collagen úr þorskroði og þróa

það áfram og nú erum við komin með þessa framleiðslu í hendurnar, sem er þessi frábæri heilsudrykkur, Alda,“ segir Tómas Eiríksson hjá Codlandi. Codland hefur unnið að drykknum í samstarfi við brugghúsið Steðja í Borgarfirði. Drykkurinn hefur verið til sölu á veitingastaðnum Hjá Höllu í Grindavík að undanförnu en er væntanlegur í verslanir á næstu dögum. Alda er ferskur límonaðidrykk-

ur og blandaður með collagen. Hann er jafnframt sykurlaus og því góður heilsudrykkur. Tómas vonast því til að drykkurinn verði staðsettur hjá annarri heilsuvöru í verslunum en ekki hjá gosdrykkjum. Nánar er fjallað um nýja drykkinn í Sjónvarpi Víkurfrétta sem er á dagskrá ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21:30. Þátturinn er einnig á vef Víkurfrétta, vf.is, í háskerpu.

Nýjasta hverfi Grindavíkur rís hratt við höfnina

n Kofabyggðin í Grindavík nýtur mikilla vinsælda. Strax við opnun

byggingarsvæðisins á mánudag voru mættir þangað um 30 krakkar vopnaðir hömrum og nöglum, tilbúnir til að ráðast í kofabyggingar. Hjalti Steinar Guðmundsson, umsjónarmaður opinna og grænna svæða í Grindavík, hefur kofabyggðina á sinni körfu. Hann átti alls ekki von á þessum fjölda barna í smíðavinnuna og því þurfti mun meira byggingarefni á staðinn en gert var ráð fyrir. Gömul vörubretti eru uppistaðan í byggingarefninu en einnig hefur Hjalti þurft að fara nokkrar ferðir í BYKO í Reykjanesbæ til að taka með alvöru timbur til kofabyggina. Nánar er fjallað um kofabyggðina í Grindavík í nýjasta þætti Sjónvarps Víkurfrétta sem er á dagskrá ÍNN og vf.is á fimmtudagskvöldum kl. 21:30. Þátturinn er í háskerpu á vf.is

Taka fyrstu flugskrefin

l Kynna sér flugnám á skemmtilegan hátt l Skoðuðu fis, flugvélar og fengu óvænta þyrluheimsókn

Flugbúðir Keilis voru haldnar í vikunni. Í búðunum gefst ungu fólki kostur á að kynna sér flugnám á skemmtilegan hátt. Flugbúðirnar í ár stóðu í fjóra daga, frá 13. til 16. júní. Á dagskránni var heimsókn í flugskýli Icelandair, ferð á Sléttuna þar sem krakkarnir skoðuðu og fræddust um fisflugvélar, flugvirki, flugumferðarstjóri og flugmaður komu í heimsókn og sögðu frá störfum sínum, og haldnar voru kynningar á ýmsu tengdu flugi. Þá fengu

allir nemendur að fara í flughermi hjá Keili. Nemendur komu víða að, til að mynda frá Egilsstöðum og Laugum. Flugbúðirnar hafa verið haldnar regluleg í nokkur ár og er ekkert lát á áhuga unga fólksins á flugi. Nánar er fjallað um flugbúðirnar í Sjónvarpi Víkurfrétta. Þátturinn er á dagskrá Sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN á fimmtudagskvöld kl. 21:30. Þátturinn er einnig á vef Víkurfrétta, vf.is, í háskerpu.


22

VÍKURFRÉTTIR

Fjölskylda Arnórs Ingva í alvöru búningum

fimmtudagur 16. júní 2016

Suðurnesjamenn áberandi í Frakklandi

Boltinn stopp vegna EM

Nú er komið EM hlé í flestum deildum í fótboltanum. Grindvíkingar töpuðu gegn HK í 1. deild karla á meðan Keflvíkingar misstu tvívegis niður forskot og gerðu 2-2 jafntefli gegn Fram á heimavelli í vikunni. Með tapinu féllu Grindvíkingar af toppnum niður í þriðja sæti en Keflvíkingar eru taplausir með flest jafntefli deildarinnar í fjórða sæti. Í kvennaboltanum eru Grindvíkingar á toppi B-riðils 1. deildar á meðan grannar þeirra frá Keflavík eru í fimmta sæti. Bæði lið féllu svo úr bikarnum eftir stór töp gegn úrvalsdeildarliðum. Í 2. deild karla eru Njarðvíkingar í fjórða sæti, fimm stigum frá toppsætinu. Í 3. deild karla eru þrjú Suðurnesjalið. Víðismenn dvelja ósigraðir þar á toppnum á meðan Þróttarar og Reynismenn eru í sjötta og sjöunda sæti.

Suðurnesjamenn eru fjölmennir í Frakklandi um þessar mundir þar sem Evrópumótið í knattspyrnu stendur sem hæst. Suðurnesjamenn eiga sína fulltrúa í liðinu. Njarðvíkingarnir uppöldu Arnór Ingvi Traustason og Ingvar Jónsson eru tiltölulega nýir í liðinu auk þess að hinn uppaldi Grindvíkingur Alfreð Finnbogason hefur verið fastamaður undanfarin ár. Fjölskyldur og vinir liðsmanna hafa að sjálfsögðu fjölmennt til Frakklands. Fjölskylda Arnórs Ingva er meðal annarra mætt á staðinn og eru þau að sjálfsögðu vel merkt í búningum af sínum manni. Eins og sjá má á myndinni hér að ofan þá eru systkini og faðir Arnórs öll komin í treyju sem merkt er með númeri og nafni Arnórs - „Traustason #21.“ Trausti faðir Arnórs var í sigurvímu eins og aðrir landsmenn eftir leik og í snörpu spjalli við VF sagði hann að leikurinn hafi verið ótrúleg upplifun. Enginn Suðurnesjapilta fékk að spreyta sig að þessu sinni en stemningin hjá okkar fólki er ósvikin eins og sjá má á eftirfarandi myndum.

SPORT

MOLAR

Arnar Helgi með nýtt Íslandsmet Keflvíkingurinn Arnar Helgi Lárusson setti í vikunni nýtt Íslandsmet í 400 metra hjólastólaakstri á Evrópumeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum sem fram fer á Ítalíu þessa dagana. Arnar kom í mark á 1.03.91 mín. sem er tíunda persónulega bætingin hans á árinu og nýtt Íslandsmet eins og áður kemur fram. Arnari tókst þó ekki að tryggja sér þátttökurétt í úrslitum en hann keppir aftur í dag og þá í 100 metra keppni sem verður jafnframt síðasta keppnin hans á mótinu.

ATVINNA

HREINGERNINGAR - RÆSTINGAR - AUKAVINNA Starfskraftur óskast í hreingerningar / ræstingar Okkur hjá Allt hreint vantar fólk til starfa bæði er um að ræða fullt starf og einnig vinna eftir samkomulagi. Mikil vinna framunda. Hæfniskröfur: Viðkomandi verður að vera amk 18 ára og vera með gild ökuréttindi Áhugasamir sendi tölvupóst á halldor@allthreint.is

WORK

STAFF NEEDED MUCH WORK AHEAD Requirements: Individuals must be at least 18 years old and have a valid driver’s licens Languages: Icelandic or good English We look for people for full time work (08:00 - 16:00 100%) and also part time If interested please send an e-mail to: halldor@allthreint.is

Sigurbjörg Sigurpálsdóttir er fótboltasnillingur vikunnar

Hope Solo er hetjan Grindvíkingurinn Sigurbjörg Sigurpálsdóttir er markvörður hjá 5. flokki Grindavíkur. Hún er dugleg að æfa fótbolta en hún er einnig á fullu í körfuboltanum. Í sumar langar hana til þess að komast í landsliðið eða pressuliðið í Símamótinu. Aldur/félag? Hver er þinn eftirlætis fótbolta11 ára Grindavík. maður/kona? Sara Björk Gunnarsdóttir í landsliðinu Hvað hefur þú æft fótbolta lengi? og Guðrún Bentína Frímannsdóttir í Í 4 eða 5 ár. Grindavík. Líka Unnur vinkona mín. Hvaða stöðu spilar þú? Áttu þér einhverja fyrirmynd í boltÉg er markmaður. anum? Hope Solo markmaður í bandaríska Hvert er markmið þitt í fótbolta? Í ár er að komast í pressuliðið eða landsliðinu. landsliðið á Símamótinu. Þegar ég verð eldri langar mig að komast í Hefurðu farið á fótboltaleik ermeistaraflokk, unglingalandsliðin og lendis? Nei ekki ennþá. svo A-landsliðið. Hversu oft æfir þú á viku? Þrisvar í viku með mínum flokki, einu sinni í viku með 4. flokki og svo einu sinni í viku á markmannsæfingu. Svo æfi ég körfubolta fjórum sinnum í viku.

Hversu oft getur þú haldið á lofti? Ekki mjög oft af því að ég er markmaður. Hvaða erlenda félag heldur þú upp á? Liverpool og Barcelona.

Zuzanna sigursæl annað árið í röð Zuzanna Korpak úr GS sigraði 15 til 16 ára flokk telpna á Íslandsmóti í holukeppni unglinga sem fram fór á Þorláksvelli í Þorlákshöfn um liðna helgi. Þetta er annað árið í röð sem Zuzanna sigrar Íslandsmótið í holukeppni en hún sigraði einnig á Hellu í fyrra. Kinga Korpak, yngri systir Zuzönnu, hafnaði í þriðja sæti í flokki 14 ára á sama móti. Njarðvíkingar spila í efstu deild kvenna Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur þegið boð KKÍ um að leika í Dominos deild kvenna á komandi tímabili. Síðustu tvö tímabil hefur kvennalið Njarðvíkur leikið í 1. deild en verið í toppbaráttu bæði árin. „Það var aldrei spurning um að taka sætið þegar KKÍ hafði samband við okkur. Stefnan hefur alltaf verið að koma liðinu aftur upp. Við erum með ungt og efnilegt lið og teljum þær fullfærar að spila í efstu deild. Auk þess er leikmannamarkaðurinn opinn og munum við reyna að styrkja liðið á næstu dögum. Ég ræddi stuttlega við stelpurnar í gær og heyrði strax á þeim að þær voru klárar í þetta verkefni. Það er því spennandi tímabil framundan hjá Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur,“ Segir Róbert Þór Guðnason, varaformaður deildarinnar, á vefsíðu félagsins.


Bjóst ekki við því að fá sénsinn Hinn 17 ára Tómas Óskarsson er að festa sig í sessi hjá Keflvíkingum

Fótboltaáhugafólk á Suðurnesjum hefur kannski velt því fyrir sér hver hann sé þessi hárprúði piltur er sem hleypur upp og niður vænginn hjá Keflvíkingum í 1. deildinni. Þarna er á ferðinni Tómas Óskarsson, 17 ára piltur sem nýlega hefur látið að sér kveða í fótboltanum. Hann var lítið sem ekkert inni í myndinni hjá Keflvíkingum í fyrra en hefur núna verið einn af fáum ungum leikmönnum sem hafa fengið tækifæri í byrjunarliði Keflvíkinga. Tómas hefur alla tíð verið vængmaður eða leikið fyrir aftan framherja í holunni svokölluðu. Hann er hraður leikmaður og skapar þannig oft hættu þegar hann kemst á ferðina. Tómas á ekki langt að sækja hæfileikana en afi hans, Einar Gunnarsson, var einn af máttarstólpum og fyrirliði hins sigursæla Keflavíkurliðs á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar.

ATVINNA Gerðaskóli auglýsir eftir bekkjarkennara á yngsta stigi. Umsóknir með mynd, ásamt ferilskrá og upplýsingum um umsagnaraðila berist til skólastjóra á netfangið johann@gerdaskoli.is eða til Gerðaskóla, Garðbraut 90, 250 Garður. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2016 Umsóknarfrestur er til 28. júní 2016 Nánari upplýsingar veitir Jóhann Geirdal skólastjóri í síma 8984808.

Fékk að byrja í grannaslagnum á heimavelli

Tómas var dulegur að æfa í vetur og segir það vera að skila sér núna. Hann var þó ekki að búast við því að fá mikinn spilatíma í sumar. „Nei ég bjóst nú ekki við því að fá sénsinn,“ segir hann í spjalli við Víkurfréttir. Tómas viðurkennir að hafa verið stressaður þegar hann fékk þau tíðindi að hann myndi byrja inn á í sínum fyrsta leik, en það var grannaslagur gegn Grindavík á heimavelli. „Ég var dálítið hissa og bjóst ekki við þessu. Maður reyndi bara að pæla sem minnst í því og spila sinn leik.“ Tómas hefur núna komið við sögu í öllum leikjum Keflvíkinga í sumar og er nokkuð sáttur við gengi liðsins og það tækifæri sem hann hefur fengið. Tómas kann vel að meta þá reynslu sem hann er að öðlast og nýtir alla þá reynslu sem er í kringum hann í öflugu Keflavíkurliði. „Það er mjög gott að spila með þessum strákum. Þeir leiðbeina manni vel,“ segir þessi efnilegi leikmaður að endingu.

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ

ÍSLENSKA/SIA.IS/TOY 79542 04/16

17. JÚNÍ

REYKJANESBÆ


Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

Mundi STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

twitter.com/vikurfrettir

Hvað er Skúli Mogensen núna að „kokka“?

instagram.com/vikurfrettir

Opna flugeldhús í haust ●●Spennandi tímar framundan og mörg tækifæri á Keflavíkurflugvelli, segja eigendur Air Chefs Catering

Fyrirtækið Air Chefs Catering verður opnað í haust, gangi áætlanir eigenda eftir. Framkvæmdastjóri félagsins er Magnús Ólafsson. Hjá Air Chefs Catering verða framleiddar máltíðir fyrir bæði farþega og flugáhafnir WOW air og annarra flugfélaga sem fljúga til Íslands. Einnig mun þar verða framleiddur matur fyrir mötuneyti Airport Associates og önnur fyrirtæki sem til félagsins leita. Eldhúsið verður staðsett í nýbyggingu Airport Associates sem nú er verið að reisa á flugvallarsvæðinu. Að Air Chefs Catering standa Airport Associates, Fjárfestingarfélagið Títan ehf. í eigu Skúla Mogensen, aðaleiganda WOW air, og Fjárfestingarfélagið MK í eigu Magnúsar og viðskiptafélaga hans. Magnús er matreiðslumaður og viðskiptafræðingur að mennt og var áður framleiðslustjóri hjá IGS svo hann er vel kunnugur starfsemi sem þessari. Að sögn hans verða starfsmenn tíu til

Reykjanesbær fær frest til 10. júlí

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur veitt bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ frest til 10. júlí næstkomandi til að taka afstöðu til tillögu nefndarinnar um að bæjarfélaginu verði skipuð fjárhaldsstjórn. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum 7. júní síðastliðinn að óska eftir fresti þar sem viðræður við kröfuhafa standa enn yfir.

SJÓNVARP V Í K U R F R É T TA

NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ WWW.VF.IS/VEFTV

SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!

fimmtán til að byrja með og verður unnið samkvæmt vaktafyrirkomulagi. „Þetta er mjög spennandi verkefni að opna eldhús á flugvallarsvæðinu. Nú er verið að vinna að hönnun eldhússins í samstarfi við mjög færa aðila. Það eru margvíslegar kröfur sem þarf að uppfylla í tengslum við framleiðsluna.“ Magnús segir spennandi tíma framundan, enda tækifærin mörg á Keflavíkurflugvelli.

Við undirritun samstarfssamnings Air Chefs Catering og Airport Associates á dögunum. Frá vinstri Engilbert Hafsteinsson, Skúli Mogensen, Magnús Ólafsson, Sigþór Kristinn Skúlason, Elías Skúli Skúlason og Karl Finnbogason.

HS Veitur hf leita að öflugum liðsmönnum á aðalstöðvar fyrirtækisins í Reykjanesbæ Forstöðumaður hita- og ferskvatnsdeildar Starfssvið - Rekstur dreifikerfa fyrir neysluvatn og heitt vatn. - Umsjón með hönnun, verklegum framkvæmdum, starfsmannahaldi og nýframkvæmdum deildarinnar. - Umsjón með innra eftirliti, gæðastjórnun og mælabúnaði deildarinnar. - Áætlanagerð og uppgjörsmál fyrir deildina. - Umsjón með tölvustjórnunarkerfum veitukerfanna. - Tryggja nauðsynlega samvinnu við aðrar deildir.

Hæfniskröfur - Háskólamenntun á sviði verk- eða tæknifræði t.d. bygginga- eða véla. - Samskiptahæfni og frumkvæði. Starfið krefst mikilla samskipta við fólk, bæði innan og utan fyrirtækisins - Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.

Nánari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson forstjóri í síma 422 5200.

Rafvirkjar / rafveituvirkjar / Nemar Starfssvið - Viðhald og viðgerðir á dreifikerfi, línum og götulögnum. - Nýlagnir, tengingar og frágangur.

Hæfniskröfur - rafvirkjar / rafveituvirkjar - Sveinspróf í rafvirkjun eða rafveituvirkjun. - Sjálfstæð vinnubrögð. - Góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum. Hæfniskröfur - nemar - Grunndeild rafiðnaðar. - Sjálfstæð vinnubrögð. - Góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Stefánsson svæðisstjóri í síma 422 5200.

Umsækjendur sækja um starfið á heimasíðu fyrirtækisins www.hsveitur.is Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2016. HS Veitur hf voru stofnaðar 1. desember 2008 þegar Hitaveitu Suðurnesja hf var skipt í HS Veitur hf og HS Orku hf. HS Veitur hf annast raforkudreifingu á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, í hluta Garðabæjar, í Vestmannaeyjum og í Árborg. HS Veitur hf annast hitaveiturekstur á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum og vatnsveiturekstur að stórum hluta á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum. Starfsstöðvar HS Veitna hf eru fjórar, þ.e. í Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Vestmannaeyjum og í Árborg. Hjá HS Veitum hf starfa tæplega 90 starfsmenn. Frekari uppýsingar um fyrirtækið er hægt að nálgast á heimasíðu fyrirtækisins.

HS VEITUR HF www.hsveitur.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
24 tbl 2016 by Víkurfréttir ehf - Issuu