• fimmtudagurinn 23. júní 2016 • 25. tölublað • 37. árgangur
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Arnór Ingvi tryggði Ísland í 16-liða úrslit Arnór Ingvi Traustason var hetja Íslendinga þegar þeir sigruðu Austurríkismenn 2-1 með marki Suðurnesjamannsins á síðustu mínútu í uppbótartíma á EM í knattspyrnu. Keflvíkingurinn tryggði þannig Íslendingum farseðil í 16-liða úrslit þar sem andstæðingar verða Englendingar. Arnór kom inn á lið Íslands þegar um tíu mínútur voru til leiksloka og fékk strax þungt höfuðhögg þegar hann skallaði boltann út úr íslenska teignum en Hinteregger, leikmaður austuríska liðsins skallaði okkar mann í höfuðið, án þess þó að hann meiddist alvarlega. Það var gríðarlegur fögnuður í liðinu og hjá tíu þúsund stuðningsmönnum liðsins á Stade de France leikvanginum í París. Arnór Ingvi var í skýjunum eftir leikinn í viðtali við Guðmund Benediktsson og Þorstein Joð í beinni útsendingu: „Þetta er eiginlega ótrúlegt. Ég er með hroll og þetta er magnað. Ég ákvað að hlaupa eins og ég gat þegar ég sá Theodór Elmar hlaupa upp kantinn og rétt náði í boltann. England er næsta lið og við förum að
Draumamark Arnórs Ingva á lokasekúndum leiksins. Skjáskot af Sjónvarpi Símans.
undirbúa okkur fyrir þann leik. Við eigum þetta skilið, hópurinn er frábær og við viljum vera áfram hér, taplausir,“ sagði Arnór sem nýlega var seldur til austuríska liðsins Rapid Vín.
Arnór Ingvi fagnar markinu í gær. Ljósmynd: Hafliði Breiðfjörð
Framkvæmdir hafnar við tjaldsvæði í Reykjanesbæ svæðið sem er staðsett við Landnámsdýragarðinn. Reykjanesbær mun koma upp aðstöðunni en rekstaraðilarnir verða Viking World, fyrirtæki sem rekur Víkingaheima. Guðlaugur segir að kostnaður Reykjanesbæjar vegna framkvæmdanna verði undir tíu milljónum en hann gat ekki skotið á nákvæmari upphæð að svo stöddu. Síðast var tjaldsvæði í bæjarfélaginu sumarið 2012 þegar Alex bílaleiga var með aðstöðu við Aðalgötu í Keflavík.
SJÓNVARP
VIKULEGUR
MAGASÍNÞÁTTUR
FINNBOGI RENNIR PENNA ÚR TRÉ
FRÁ
EFNI ÞÁTTARINS Í ÞESSARI VIKU SUÐURNESJUM
Í
SJÓNVARPI
STYTTURNAR HANS HELGA VEKJA ATHYGLI Í GARÐINUM
KAFFIHÚS OPNAR Í GAMLA VITANUM Á GARÐSKAGA
SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA
ER Á DAGSKRÁ ÍNN OG VF.IS ALLA FIMMTUDAGA KL. 21:30
Marka-Jón dró fánann að húni
Jón Ragnar Jóhannsson, fyrrverandi forstöðumaður íþróttamannvirkja Keflavíkur og Reykjanesbæjar og markahrellir í knattspyrnu, dró hátíðarfánann að húni á þjóðhátíðardaginn 17. júní í Reykjanesbæ. Fáninn er sá stærsti á landinu og er það mikill heiður að fá að draga hann að húni. Marka-Jón, eins og hann var nefndur, á knattspyrnurárum sínum, fór auðvitað létt með það en fékk smá hjálp hjá Kjartani Má bæjarstjóra og skátum í Heiðabúum. Veðrið lék við þjóðhátíðargesti og við birtum fleiri myndir og meiri texta á bls. 6. VF-mynd/pket.
FÍTON / SÍA
Fyrirhugað er að opna tjaldsvæði við Víkingaheima í Reykjanesbæ nú síðar í sumar en framkvæmdir eru þegar í fullum gangi á svæðinu. Guðlaugur H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar segir að stefnt sé að því klára tjaldsvæðið nú í sumar og reiknar hann jafnvel með að það verði tekið í notkun í júlí. Jarðvegsvinna var í fullum gangi þegar blaðamann Víkurfrétta bar að garði en fljótlega verður farið að leggja gras á
einföld reiknivél á ebox.is
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
2
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 23. júní 2016
SUMARSÓLSTÖÐUR Lengsti dagur ársins var í vikunni og er óhætt að segja að sumarsólstöður hafi staðið undir nafni. Sólin hefur látið sjá sig svo um munar og sent bjarta og hlýja strauma til okkar. Veðurspáin fyrir seinni part vikunnar var ekki eins góð en engu að síður boðar hún milt og gott veður þó skýin komi til með að fela þá gulu. Á myndinni má sjá sólina við það að setjast rétt eftir miðnætti síðasta mánudagskvöld 20. júní, á sumarsólstöðum. Hólmbergsviti stendur vaktina en hann var reistur árið 1956 og er tæplega 10 metra hár. VF-mynd/pket.
Minnisvarða stolið á Stafnesi
■■Efsta hluta af minnisvarða um togarann Jón forseta RE hefur verið stolið. Frá þessu var greint á vef Aflafrétta og á vef Rúv. Búið er að brjóta festingar sem héldu efsta hluta minnisvarðans, styttu af skipinu. Minnisvarðinn stendur á Stafnesi og var afhjúpaður árið 2009. Hann er til minningar um strand togarans Jóns forseta RE árið 1928. Með togaranum fórust fimmtán manns en tíu var bjargað í land. Togarinn strandaði við Stafnes, á milli Sandgerðis og Hafna í illviðri.
KJÖRFUNDUR
Lögreglan stöðvaði för bílsins á gatnamótum Hátúns og Aðalgötu.
Grunaður um ölvun stöðvaður af lögreglu ■■Tveir lögreglubílar stöðvuðu för bifreiðar á leið út úr Hátúni í Keflavík um miðjan dag á sunnudag. Ökumaðurinn var grunaður um ölvun við akstur. Eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmynd frá vettvangi stöðvuðu lögreglumenn för bílsins með því að aka lögreglubílum í veg fyrir bifreiðina. Við aðgerðina skapaðist nokkur umferðarteppa á Aðalgötu, sem er umferðarmikil gata í Keflavík. Ökumaðurinn var færður til lögreglustöðvar í sýnatöku og lögreglumenn óku jafnframt bifreiðinni af vettvangi og var hún geymd við lögreglustöðina í Keflavík.
VEGNA FORSETAKOSNINGA Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM 25. JÚNÍ 2016 Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00 Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, gengið inn frá leikvelli Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna forsetakosninga liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga fram að kjördegi. Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga
Bíll brann í Keflavík ■■Eldur kom upp í bifreið við Hafnargötu 32 í Keflavík í síðustu viku. Þegar slökkvilið kom á staðinn var mikill eldur í bílnum en þegar slökkvistörfum lauk hafði allt brunnið sem brunnið gat inni í bílnum sem er af gerðinni Toyota Yaris. Ekki hefur fengist staðfest að um íkveikju sé að ræða en grunur leikur á um að svo hafi verið.
4
VÍKURFRÉTTIR
LÍTIÐ KAFFIHÚS Á FJÓRUM HÆÐUM ●●Undirbúa opnun á kaffihúsi í gamla vitanum á Garðskaga „Hér er einhver orka og kraftur sem fyllir mann bjartsýni eins og sést á öllu því fólki sem kemur hingað aftur og aftur,“ segir Jóhann Ísberg hjá félaginu Garðskaga sem undirbýr opnun á kaffihúsi í gamla vitanum á Garðskaga. Búið er að gera vitann upp, setja í hann gólf og rafmagn. Jóhann segir að vissulega verði kaffihúsið ekki mjög stórt, en að það verði á fjórum hæðum. Stórkostlegt útsýnið muni svo ekki svíkja neinn. Félagið Garðskagi hefur tekið húsin á Garðskaga á leigu. Búið er að mála og endurbæta nýja vitann sömuleiðis. Á dagskránni eru svo þrjár sýningar þar; norðurljósasýning, hvalasýning og vitasýning. Búið er að lagfæra og stækka veitingastaðinn á Garðskaga. „Í framtíðinni mun svo verða sett upp norðurljósasafn á Garðskaga og
fimmtudagur 23. júní 2016
Það er ekki vítt til veggja í gamla vitanum á Garðskaga en það er hátt til lofts og brattir stigar á milli hæða. Hægt er að setjast niður á öllum hæðum með kaffibolla og veitingar. VF-myndir: Hilmar Bragi
þar er auðvitað líka byggðasafnið sem búið er að byggja upp með myndugleik í mörg ár,“ segir Jóhann. Að sögn Jóhanns hófst sveitarstjórnin handa við stefnumótun á Garðskagavita fyrir um tveimur árum og kom hugmyndin að starfseminni sem nú er að hefjast úr þeirri vinnu. Jóhann kveðst bjartsýnn á að þegar þjónustan á Garðskaga verði bætt með þessum hætti muni ferðaþjónustuaðilar sækja þangað í enn meiri mæli. „Við vonumst auðvitað eftir því að hingað komi líka Garðmenn og Suðurnesjamenn. Þjónustan er ekki síður fyrir Íslendinga en útlendinga.“ Jóhann er ekki úr Garði en segir svæðið vera paradís. „Þetta er einstakur staður. Hér er gul sandströnd og hefðbundin grjótströnd.
Það er friðsælt hérna svo margir sækja hingað.“ Hans tilfinning er sú að fólk í Garðinum sé almennt ánægt með að líf sé að færast í vitana enda hafi sá gamli lengi verið í niðurníðslu. „Vonandi tekst okkur að gera þetta þannig að það verði staðnum til sóma og að íbúarnir verði ánægðir.“ Vinsælt er að skoða norðurljósin á Garðskaga og er ætlunin að bjóða upp á þjónustu allan ársins hring. Jóhann óttast ekki dræma aðsókn yfir kaldasta vetrartímann. „Við erum við flugvöllinn, við hliðið að Íslandi. Ef ekki er hægt að fá til okkar ferðamenn yfir veturinn, þá veit ég ekki hvenær það er hægt.“ Jóhann segir alls ekki eins hvasst á Suðurnesjum og hann hafði heyrt, enda hafi góðviðrisdagarnir í vor og sumarbyrjun verið margir.
SNJÖLL ÖPP GUÐMUNDAR:
Er með blæti fyrir ódýru drasli
Gjaldkeri óskast til starfa
Keflvíkingurinn Guðmundur Jóhann Árnason
Pósturinn í Keflavík óskar eftir að ráða gjaldkera til starfa. Óskað er eftir jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund sem á auðvelt með samskipti. Vinnutími frá 08:45 - 17:00 og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar gefur Hafdís Friðjónsdóttir í síma 421 5001 eða á pósthúsinu. Umsóknarfrestur er til 29. júní 2016. Umsóknum skal skilað á umsóknarvef Póstsins: umsokn.postur.is
fékk hjólabakteríuna síðasta sumar. Hann keppti í WOW cyclothon í síðustu viku með liði Fjallabræðra, en hann hefur verið á fullu að syngja með sveitinni undanfarin ár. Á daginn er Guðmundur svo lögfræðingur hjá Tollstjóra. „Það gekk vonum framar og við komum sjálfum okkur á óvart. Eina markmiðið var að koma í mark með gleði og brosi og það tókst og rúmlega það. Náðum að klára á 43 tímum og erum betri vinir en áður. Klárlega með því skemmtilegra sem ég hef gert og ætla klárlega aftur,“ segir Guðmundur um hjólreiðakeppnina en farið er hringinn í kringum landið. Á næstunni er Guðmundur á leið til London ásamt 150 Fjallabræðrum, Jónasi Sig og Lay Low, þar sem ætlunin er að taka upp plötu. Við fengum að kíkja aðeins í símann hjá Guðmundi og forvitnast um gagnleg öpp sem hann notast mikið við.
Strava
Það er mjög einföld regla í lífinu - ef það er ekki á Strava, þá gerðist það ekki. Nota þetta mikið þegar ég hjóla til að bera mig saman við aðra og monta mig ef ég næ betri hraða en vinirnir. Algjör snilld fyrir hjólin til að halda utan um tölfræðina og keyra sig áfram. Í appinu er búið að skipta leiðum upp í smærri keppnir og getur maður því keppt við vinina um að eiga besta tímann á hverri leið.
Music Memos
SJÓNVARP V Í K U R F R É T TA
NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ
WWW.VF.IS/VEFTV
SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!
Eitthvað alflottasta appið fyrir tónlistarmenn í dag. Í appinu geturðu hvar sem er spilað inn, eða sungið laglínu og appið les nótur út úr því og getur svo bætt við bassa og trommum með einum smelli. Ef maður er eitthvað í tónsmíðum þá er þetta lykilatriði til að muna lögin sín og búa til einföld lög án mikillar þekkingar. Hægt er svo að færa þetta yfir í Garage band appið og bæta við hljóðfærum og fullútbúa „hittara.“ Kannski verður appið til þess að plata líti dagsins ljós.
AliExpress
Ég er með blæti fyrir ódýru drasli sem ég vissi ekki að ég þyrfti. Stundum líður mér illa ef það er ekkert á leiðinni til mín frá Kína. Þarna kaupi ég þó líka nytsamlega hluti svo sem hjólaföt og aukabúnað ásamt hljóðfærabúnaði
og spara mér marga þúsundkalla. Frönskuskerinn og rauðvín-umloftari eru bestu kaupin. Ég kíki reglulega á tilboð dagsins og fylgist vel með.
Evernote
Ég er afskaplega lélegur að muna hluti og ennþá verri í að halda utan um þá. Evernote er app sem tengir saman skjalabókhaldið mitt bæði í vinnu og heima. Þarna geymi ég uppskriftir sem ég get nálgast hvar sem er, verkefnin í vinnunni, söngblöðin fyrir Fjallabræður og allt annað sem ég þarf að getað nálgast hvar sem er. Frábært app sem hefur oftar en einu sinni bjargað lífi mínu.
GuitarTuna
Að hafa app í símanum til að stilla gítarinn er jafn nauðsynlegt fyrir mig og súrefniskútur er fyrir kafara. Ég hef ekki enn náð tækninni að græja þetta með eyrunum eingöngu og er þetta app mikið notað hjá mér. Mjög einfalt í notkun og tekur bara örskamma stund að fara úr illa stilltum gítar í töfratæki. Algjörlega nauðsynlegt app!
„Ég er afskaplega lélegur að muna hluti og ennþá verri í að halda utan um þá“
markhönnun ehf
Grillbúðin þín -25%
Lambakjöt á grillið í miklu úrvali KINDAFILLE MARINERAÐ, FERSKT ÁÐUR: 3.998 KR/KG
-31%
-20%
2.999 KR SIRLOINSNEIÐAR VILLIKRYDDAÐAR ÁÐUR: 1.998 KR/KG
1.598 KR
Pylsupartý MORGUNVERÐARPYLSUR - 180 G ÁÐUR: 495 KR/PK
446 KR
FERSKT LAMBA FILLET M. FITU - GOTT Á GRILLIÐ ÁÐUR: 5.719 KR/KG
3.946 KR
Nauta Rib-eye
-34%
OSTA GRILLPYLSUR - 300 G ÁÐUR: 593 KR/PK
534 KR
KALKÚNAPYLSUR - 10 STK ÁÐUR: 1.798 KR/PK
1.259 KR
BRATWURSTE GRILLPYLSUR - 360 G ÁÐUR: 1.798 KR/PK
1.259 KR
-34%
NAUTA RIB EYE LÍTIL STYKKI ÁÐUR: 2.998 KR/KG
1.979 KR Prófaðu eitthvað nýtt á grillið! Hrefnukjöt, kengúrufillet og kalkúnasneiðar.
-30% KALKÚNASNEIÐAR RED SALSA MARINERAÐAR ÁÐUR: 2.998 KR/KG
1.979 KR
KENGÚRU FILLET ÁÐUR: 1.698 KR/KG
1.189 KR
-40% HREFNUKJÖT KRYDDLEGIÐ/FERSKT ÁÐUR: 2.591 KR/KG
1.555 KR
www.netto.is | Tilboðin gilda 23. – 26. jan 2016 Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
6
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 23. júní 2016
ÓRAUNVERULEGT AUGNABLIK Á KÍNAMÚRNUM ●●Ferðalag um gjörvöll Bandaríkin ● á húsbíl er draumurinn
Jón Jóhannsson með hluta af fjölskyldu sinni í skrúðgarðinum.
MARKA JÓN DRÓ FÁNANN AÐ HÚNI ●●Fjölmenni sótti hátíðarhöld 17. júní í Reykjanesbæ
Mikið fjölmenni sótti hátíðarhöld þjóðhátíðardagsins, 17. júní í Reykjanesbæ. Jón Ragnar Jóhannsson dró þjóðhátíðarfánann að húni með aðstoð Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra og skátafélaga í Heiðarbúum. Eflaust hefur veðurblíða hafa eitthvað að segja með aðsóknina því sjaldan hafa jafn margir mætt í skrúðgarðinn í Keflavík. Athöfnin þegar fáninn er dreginn að húni er alltaf mjög hátíðleg en hún er fyrsti liður í hátíðarhöldunum í skrúðgarðinum. Skátarnir leiða skrúðgöngu frá Keflavíkurkirkju eftir hátíðarmessu og tónlistarfólk frá Tónlistarskólanum í Reykjanesbæ blæs í hljóðfærin á leiðinni.
Eftir fánahyllingu söng Karlakór Keflavíkur þjóðsönginn og Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar, setti hátíðina. Sigurður Eyberg Jóhannesson, umhverfis- og auðlindaverkfræðingur, flutti hátíðarræðu og Ingibjörg Sól Jónsdóttir, nýstúdent frá FS flutti ávarp fjallkonu. Síðan var boðið upp á fjölbreytt skemmtiatriði í skrúðgarðinum og einnig í ungmennagarði um kvöldið. Góð stemmning var á fallegum degi og fjölmargir sóttu kaffisölu Keflvíkinga og Njarðvíkinga, í Myllubakkaskóla og Njarðvíkurskóla.
Þingkonan Silja Dögg Gunnarsdóttir ætlar að vera eins mikið heima í garðinum hjá sér og mögulegt er í sumar. Hún ætlar þó að skjótast í bústað og tjaldútilegur á milli garðyrkjustarfa. Á sínum æskuárum fór Silja árlega í Húsafell þar sem hún undi sér vel. Hún hefur síðan farið margar eftirminnilegar ferðir víða um heim, en hér deilir hún nokkrum sumarminningum með lesendum Víkurfrétta. Hvernig verður sumarfríið hjá þér í ár? Ég ætla að vera sem mest heima í sumar að rækta garðinn minn. Það fyllir mig orku og gleði að vera úti í garði að vinna, mjög endurnærandi eftir langan kyrrsetuvetur. Kaffispjall á pallinum með góðu fólki er líka hátt skrifað sem og bakstur og annað eldhússýsl, sem ég hef mjög gaman af en lítinn tíma fyrir á veturna. Í ágúst ætla ég síðan að skjótast í bústað í Kjarnaskógi og dvelja í viku. Ef ég tími að fara meira að heiman, þá geri ég ráð fyrir styttri tjaldútilegum með krökkunum inn á milli garðyrkjustarfa. Eftirminnilegasta fríið? Erfið spurning, margar góðar minningar sem koma upp í kollinn þegar ég leiði hugann að því. Ég á bjartar minningar frá æskuárunum þegar ég fór árlega í hjólhýsi í Húsafell með foreldrum mínum og yngri bróður. Daglegar sundferðir, sprektýnsla og grillaðar pylsur við varðeld á kvöldin. Ferðir á framandi slóðir eru líklega eftirminnilegastar, eftir að ég varð fullorðin. Þá er það ferðalagið til Egyptalands þar sem ég sigldi yfir Níl, ferðaðist um á úlfalda og drakk te í litlu þorpi, uppi á þaki
undir stjörnubjörtum himni. Gestgjafarnir bjuggu í litlu húsi með mold argólf i, án rafmagns og allt um kring var fólk í síðum kuflum, að bera eitthvað sem líktist sykurreir á bakinu. Geitur, asnar og önnur húsdýr gengu laus um á milli húsa. Líktist ferðalagi þúsundir ára aftur í tímann. Svo fórum við hjónin til Kína á þessu ári sem var mjög eftirminnileg ferð. Við dvöldum bæði í Shanghai og Peking og skoðuðum okkur um. Fórum meðal annars upp á Kínamúrinn. Vorum þar síðdegis og flestir gestirnir farnir þar sem loka átti hliðunum skömmu síðar. Við áttum þar augnablik, sem var óraunverulegt; við tvö ein upp á Múrnum og enga mannveru að sjá svo langt sem augað eygði. Kína kom okkur verulega á óvart. Við höfðum heyrt um efnahagslegan uppgang þar og mikla mengun í borgum, en að sjá þetta og upplifa hvoru tveggja, með eigin augum hafði djúpstæð áhrif á mig. Hvert væri draumasumarfríið? Auðveld spurning: Leigja húsbíl í þrjá mánuði og keyra um Bandaríkin þver og endilöng.
Mikið fjölmenni mætti í skrúðgarðinn og naut hátíðarhalda í rjómablíðu.
Ingibjörg Sól Jónsdóttir, nýstúdent frá FS var fjallkona.
Sigurður Eyberg var ræðumaður dagsins.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
https://we.tl/vESZjn2NMp
Sækjum Bessastaði heim Íslenska þjóðin tekur forseta Íslands fagnandi hvar sem hann kemur. Það er löngu tímabært að forsetinn endurgjaldi gestrisni þjóðarinnar. Forseti Íslands þarf að hafa skilning á stöðu landsbyggðarinnar. Hann verður að hugsa út fyrir höfuðborgarsvæðið og hlusta á sjónarmið allra landsmanna.
Davíð - kjósum reynslu á Bessastaði
Fylgstu með á Facebook | www.xdavid.is
8
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 23. júní 2016
ÞEKKIR ORÐIÐ ÞÚSUNDIR ANDLITA ●●Valli í Ungó um sjoppumenningu og sambandið við viðskiptavinina Valgeir Magnússon hefur ásamt fjölskyldu sinni rekið sjoppuna Ungó við Hafnargötu síðustu 12 árin. Valli eins og hann er jafnan kallaður, var þá að vinna hjá fyrri eigendum þegar hann var 19 ára gamall. Þeir hugsuðu sér til hreyfings og því þótti Valla tilvalið að taka við rekstrinum. Það gerði hann með hjálp foreldra sinna sem voru eigendur á meðan hann sá um reksturinn. Þetta var árið 2004 en síðan þá hefur Ungó á Hafnargötu verið sannkallað fjölskyldu fyrirtæki þar sem allir hjálpast að. Valli segir það hafa verið nokkuð erfitt að vera í rekstri svo ungur að árum. Hann kynntist konuni sinni, Þorgerði Sigurbjörnsdóttur, um sama leyti og þau eignuðust saman barn. Fyrir átti hún dóttur þannig að Valli var skyndilega tvítugur með fjölskyldu og fyrirtæki. Ári síðar kom svo þriðja barnið þannig að það var sannarlega nóg um að vera.
Væri ekki með hátt tímakaup
„Ég segi það alltaf að svona fyrirtæki gangi ekkert nema þessu sé sinnt með hjartanu. Það þýðir lítið fyrir mig að sofa út og láta einhvern annan sjá um þetta. Maður er ekkert á tímakaupi. Ef ég myndi reikna það út þá væri það ekki hátt,“ segir Valli og hlær. Valli
og fjölskylda hans fluttust til Njarðvíkur frá Eskifirði þegar hann var ný fermdur. Hann hélt þá þegar með Njarðvík í körfuboltanum og var ekki lengi að koma sér inn í boltann þegar hann fluttist suður. „Ég fékk grænt blóð í æð frá þeim Einari Jóhanns og Örvari Kristjáns og varð mikill Njarðvíkingur strax,“ segir Valli og vísar þar til fyrstu þjálfara sinna í körfunni. Stundum er það þannig að Valli þarf ekki einu sinni að tala við viðskiptavinina sem eru fastagestir hjá honum á Ungó. „Þá sér maður bílinn koma og maður fer bara og nær í sígarettupakkann og viðkomandi borgar. Það eru milljón svona sögur,“ segir Valli og brosir. Það er því óneitanlega sérstakt samband sem kaupmaðurinn á við
LAUS STÖRF VELFERÐARSVIÐ Starf á heimili fatlaðs fólks FJÁRMÁLASVIÐ Deildarstjóri launadeildar ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ Verkamaður LEIKSKÓLINN TJARNARSEL Leikskólakennari LEIKSKÓLINN TJARNARSEL Sérkennslustjóri Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi /laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
VIÐBURÐIR ERTU MEÐ HUGMYND FYRIR LJÓSANÓTT?
Nammibarinn er alltaf vinsæll, enda sá stærsti hérna á svæðinu.
viðskiptavini sjoppunnar. Fólki þykir svolítið vænt um sjoppurnar sínar þó svo að þeim fari fækkandi víða um land. Valli segir að í Reykjanesbæ sé sjoppumenningin frekar sterk miðað við annars staðar. „Stórmarkaðirnir eru að taka svolítið við hlutverki sjoppunnar. Áður var þetta þannig að þegar búðirnar lokuðu þá tóku sjoppurnar við á kvöldin og þær lifðu á því. Nú er þetta ekki þannig.“ Nú fyrir skömmu voru gerðar miklar breytingar á Ungó þar sem allt var tekið í gegn. Valli segir að þeim breytingum hafi verið tekið ákaflega vel. Úrvalið af ís og á grillinu var aukið til muna en Valli segir að ísinn sé stærsti parturinn af rekstrinum.
Eftir að hafa staðið vaktina núna í næstum 15 ár í lúgunni þá þekkir Valli orðið ansi marga og hefur séð marga viðskiptavini vaxa úr grasi. „Fyrir einhverjum árum man ég eftir því að það kom hingað fimm ára strákur með afa sínum í fyrsta skipti að kaupa nammi. Núna í vetur byrjaði þessi sami strákur að vinna hjá mér, það er nokkuð magnað. „Það er svo skemmtilegt að sjá þessa krakka stækka. Allt í einu eru þau komin með bílpróf og mætt í lúguna hjá manni. Maður veit ekkert endilega hvað allir heita en maður þekkir orðið þúsundir andlita,“ segir verslunarmaðurinn sem er ávallt léttur í lundu. „Ég væri auðvitað ekki búinn að vera í þessu nema mér myndi finnast þetta skemmtilegt. Svona heilt yfir er þetta
FANTASÍUR OG FORNLEIFAFRÆÐI Sylvía Oddný Arnardóttir er lesandi vikunnar. Sylvía les mikið og undanfarið hefur hún lesið mikið af fornleifafræðibókum en hún útskrifast með B.A próf í faginu í haust. Hvaða bók ertu að lesa núna? The Deed of Paksenarrion. Fantasíubók um stelpu sem gerist málaliði eftir Elisabeth Moon.
SUMARSÝNINGAR Í DUUS SAFNAHÚSUM
Hver er eftirlætis höfundur þinn? Terry Pratchett, J.K Rowling og Tamora Pierce.
Sumarsýning leikhópsins Lottu, Litaland, verður sýnd í Skrúðgarðinum við Ytri Njarðvíkurkirkju í dag kl. 18:00. Miðaverð 1.900 krónur.
Þetta er sjálfsagt kunnuleg sjón fyrir margan Suðurnesjamanninn. Valli mættur með bros á vör í lúguna.
LESANDI VIKUNNAR
Hver er þín eftirlætis bók? Night watch eftir Terry Pratchett og eiginlega eru allar bækur eftir hann í uppáhaldi, eða um 90%.
LEIKHÓPURINN LOTTA SÝNIR Í REYKJANESBÆ
gerðar félagsmiðstöðvar. Valli segir að krakkarnir séu hin bestu skinn og hegði sér vel. „Ef maður talar við þau af virðingu og eins og jafningja þá fær maður það til baka,“ segir sjoppueigandinn að lokum.
Allt í einu eru þau komin með bílpróf og mætt í lúguna
Ef þú lumar á góðri hugmynd að viðburði eða dagskrá á Ljósanótt, endilega sendu okkur línu á ljosanott@ reykjanesbaer.is.
Mannfélagið í Listasafni Reykjanesbæjar. Sögur úr bænum í Gryfjunni.
hrikalega skemmtilegt starf. Enginn dagur er í rauninni eins þrátt fyrir að þú sért að gera marga sömu hlutina.“ Þegar skólarnir eru búnir þá fullast sjoppurnar oftar en ekki af unglingum enda hafa þær löngum verið hálf-
Hvernig bækur lestu helst? Margar gerðir; skáldsögur, glæpasögur, fantasíur – en það eru til margar gerðir fantasíubóka, fornleifafræðibækur og skrýtnar sérfræðibækur. Ég var til dæmis að klára bók um byggingu neðanjarðar lestarkerfisins í London.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Monstrous Regiment eftir Terry Pratchett og Howl‘s Moving Castle eftir Diana Wynne Jones. Hvaða bók finnst þér að allir ættu að lesa? Small Gods eftir Terry Pratchett. Hvar finnst þér best að lesa? Alls staðar þar sem ég get mögulega sest niður, eða staðið! Hvaða bókum viltu mæla með fyrir áhugasama lesendur? Ég mæli með Terrier eftir Tamora Pierce, Welcome to the Night Vale eftir Jeffrey Cranor og Bókaþjófnum eftir Markus Zusak.
Í hverri viku í allt sumar verður valinn Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar. Lesandi vikunnar birtist í Víkurfréttum alla fimmtudaga í sumar. Í lok hvers mánaðar fær einhver einn heppinn lesandi lestrarverðlaun. Allir sem vilja taka þátt eða mæla með lesanda þurfa að skrá sig en það er hægt að gera í afgreiðslu Bókasafnsins eða á heimasíðu safnsins:sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/ eða myndabrengl. Tilboð gilda frá 23. - 27. júní eða á meðan birgðir endast.
ÞÚ FÆRÐ ALLT EFNIÐ Í PALLINN HJÁ OKKUR
-20%
PALLAOLÍA, glær eða gyllt 3l.
1.995
kr.
80602501-2 Almennt verð: 2.495 kr.
STEINVARI, útimálning, vatnsþynnanleg akrýlplastmálning fyrir múr og steinsteypta fleti þar sem krafist er lútarþols, mikils veðrunarþols og rakagegnstreymis, 10l.
-25%
LÁGT VERÐ ALLA DAGA síðan 1962
FIA, rúlla og bakki 25cm.
-25%
995
kr.
84100160
9.875
ÞOL, þakmálning hvítt 4l.
kr.
MÁLNINGARFATA, 12l.
4.475
86647583 Almennt verð: 13.165 kr.
595
kr.
Athugið að tilboð gildir aðeins fyrir hvíta liti.
kr.
86790040 Almennt verð: 5.965 kr.
58761012
GARÐBORÐ, lengd 180cm
NÝTT
12.995
-19%
kr.
0291451 Almennt verð: 15.995 kr.
SORPTUNNUGEYMSLA
-18%
Tvöföld:
39.995
kr.
GIRÐINGAREINING, 180x180cm
0291700 Almennt verð: 48.995 kr.
12.995
Einföld
kr.
-19%
0291378 Almennt verð: 15.995 kr.
19.995
kr.
-19%
0291701 Almennt verð: 24.595 kr.
-30% DELTA SLÍPIVÉL, 180W
STIKLUR, 60x60cm
3.495
-30%
1.295
kr.
kr.
74801040 Almennt verð: 4.995 kr.
0291480
-30%
RAFHLÖÐUBORVÉL 18V.
5.735
kr.
74804118 Almennt verð: 8.195 kr.
-31% HÁÞRÝSTIDÆLA AQT-37, 130bör, 1.7kW.
HJÓLSÖG 1200W.
6.995
kr.
23.995
kr.
74810237 Almennt verð: 34.595 kr.
74802055 Almennt verð: 9.995 kr.
GARÐBEKKUR 2ja sæta Islandic.
29.995
kr.
0291473
AuðvelT að versla á byko.is sendum út um allt land
AUGLÝSING VEGNA KJÖRS FOR
KJÖRSKRÁ OG KJÖRSTAÐIR Í REYKJANESB
Kjörskrá fyrir Reykjanesbæ vegna forsetakosninga sem fram fara þann 25. júní 2016 liggur frammi almenningi til sýnis á b hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Sérstök athyg
Grófin
Iðavellir
Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar: Hildur Ellertsdóttir formaður, Kristján Friðjónsson Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir, Ásdís Óskarsdóttir Hildur Gunnarsdóttir, Stefán Ólafsson
Kjörstaðir opna k
Á kjördag mun yfirkjörstjórn
ORSETA ÍSLANDS 25. JÚNÍ 2016
ESBÆ
sýnis á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér ök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
pna kl. 09:00 og loka kl. 22:00
rstjórn hafa aðsetur í Heiðarskóla sími 420 4515
Bjarkardalur
Brimdal ur Lindarbraut
12
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 23. júní 2016
FRÆNDI BJARGAÐI LÍFI MÍNU
●●Birna Valtýsdóttir var í fíkniefnaneyslu á unglingsárunum l Er nú búin að byggja sig upp á ný og stefnir á nám í rannsóknartölvunarfræði
„Þegar ég kom úr meðferð hafði ég engan stað til að fara á. Ég var búin að brenna allar brýr að baki mér en þá mætti Jón Ingi Ingibergsson, frændi minn og sótti mig og bauð mér að búa með fjölskyldunni sinni í Keflavík. Það bjargaði mér,“ segir Birna Ósk Valtýsdóttir sem leiddist út í daglega neyslu fíkniefna á unglingsárum. Eftir að hún flutti til frænda síns í Keflavík hefur hún byggt sig upp, lokið námi frá Menntastoðum MSS með glæsibrag og er hálfnuð með háskólabrú Keilis. Á næsta ári ætlar hún svo að hefja nám í rannsóknartölvunarfræði við HR og horfir björtum augum til framtíðar. Hún býr núna á Ásbrú með kærastanum sínum, Ísak Berg Jóhannessyni. Var fyrirmyndarbarn
Birna ólst upp í Grafarvogi og var alltaf til fyrirmyndar sem barn; lagði hart að sér í skóla, stundaði íþróttir af kappi og var hvers manns hugljúfi. Á unglingsárunum leiddist hún út í neyslu vímuefna og í kringum tvítugsaldurinn var útlitið orðið svart. „Ég var byrjuð að gera ýmislegt af mér í lok grunnskólans, áður en ég byrjaði í neyslu, eins og að stela bíl fjölskyldunnar og að láta mig hverfa. Það kom þeim sem þekktu mig mjög á óvart því það þótti ólíkt mér. En einhvern veginn fann ég mig vel í þessu hlutverki að vera alltaf að gera eitthvað sem var bannað og tók einfaldlega ákvörðun um að svona ætlaði ég vera. Það má eiginlega segja að ég hafi tekið algjöra u-beygju.“ Birna byrjaði að neyta áfengis sumarið fyrir 9. bekk. Hún hóf svo nám við Menntaskólann við Sund eftir 10. bekk og gekk ágætlega fyrsta árið. Um það leyti fór hún að neyta fíkniefna og að ganga verr og verr í náminu. „Ég varð þekkt fyrir það í menntaskóla að vera í miklu rugli og ofbeldisfull, eiginlega algjör
djöfull. Svo varð þetta bara verra og verra,“ segir hún. 18 ára gömul hlaut Birna dóm fyrir stórfellda líkamsárás og dvaldi af og til í fangaklefa fyrir minni brot sem ekki leiddu til dóma. Í kringum 17 ára aldurinn flutti hún að heiman. „Á þessum tíma byrjaði ég í dagsneyslu og var svo í henni í þrjú til fjögur ár og hætti alveg í námi. Eftir tvö eða þrjú ár í dagsneyslu missti ég svo íbúðina mína. Þá hófst margra mánaða fyllerí og ég var bara á flakki og stundum bjó ég í bílnum mínum og fannst það bara fínt. Maður verður ansi blindur á raunveruleikann í neyslu.“
Skreið heim til mömmu
Tímabilið þegar Birna var í daglegri neyslu hafði hún misst samband við alla fjölskylduna og hafði ekki talað við mömmu sína í langan tíma. „Svo skreið ég inn heima hjá mömmu eina nóttina. Daginn eftir sagði hún mér að ég gæti ekki verið hjá henni á meðan ég væri í neyslu. Næsta dag fór ég bara á djammið en stuttu seinna var hringt fyrir mig inn á Vog. Á þeim tíma fannst mér góð hugmynd að fara
Eftir að Birna Ósk lauk meðferð bauð frændi hennar, Jón Ingi Ingibergsson, henni að búa hjá þeim fjölskyldunni í Keflavík. „Ég tímdi engan veginn að klúðra því að fá að búa hjá þeim. Mér leið svo vel hjá þeim og hélt áfram að gera eitthvað í mínum málum,“ segir Birna. Á myndinni er Birna með Jóni Inga og Guðmundi Páli, syni hans.
í meðferð til að fá frítt húsnæði, rúm til að sofa í og mat,“ segir hún. Birna lauk meðferð á Vogi og eftirmeðferð á Vík. Þegar meðferðinni svo lauk hafði hún engan stað til að fara á. Á þeim tíma var hún líka búin að missa bílinn sinn og átti aðeins hundinn sinn og nokkrar flíkur í poka. „Ég var búin að loka á alla í fjölskyldunni og átti ekkert eftir. Það var enginn sem treysti sér til þess að fá mig inn á heimilið sitt.“ Þá birtist Jón Ingi, móðurbróðir Birnu, henni til mikillar undrunar og bauð henni að búa á heimili sínu í Keflavík. „Í æsku var hann alltaf uppáhalds frændi minn og er það auðvitað enn,“ segir Birna og brosir. „Þau eru fjögur á heimilinu og hundur og köttur. Ég fékk að gista í herbergi með dóttur hans og meir að segja að taka Doberman hundinn minn með. Þau voru svo góð við mig. Ég tímdi engan veginn að klúðra því að fá að búa hjá þeim. Mér leið svo vel hjá þeim og hélt áfram að gera eitthvað í mínum málum. Það var eitthvað svo notalegt að vera hjá þeim og eiginlega of gott til að vera satt að þau skyldu leyfa mér það. Ég var búin að vera í svo miklu rugli og hélt að allir væru fífl og fávitar en lærði að það er ekki þannig.“ Þegar Jón Ingi sótti Birnu höfðu þau ekki talað saman í nokkur ár. Birna rifjar upp að þegar hún var í neyslu hafi hún farið á Keflavík Music Festival og ætlað að gista í tjaldi og mætt heim til frænda í Keflavík að fá lánaðar dýnur sem hún svo skilaði aldrei. Birna segir það ekki spurningu að
það hafi bjargað sér að fá að flytja til frænda og fjölskyldu í hæfilega fjarlægð frá öllum gömlu neyslufélögunum.
Var búin að gleyma stærðfræðinni
Eftir að Birna flutti til Suðurnesja fór hún í endurhæfingu hjá Virk og byrjaði á námskeiðinu Af stað, sjálfstyrkingarnámskeiði fyrir fólk sem er búið að vera lengi af vinnumarkaði. Eftir það hóf hún undirbúningsnám á vegum MSS á námslínu. Meðan á endurhæfingunni stóð þurfti Birna reglulega að standast fíkniefnaprufur. Hún segir það hafa veitt gott aðhald. „Einu sinni féll ég og fékk þá strax símtal frá ráðgjöfunum hjá Samvinnu því ég fékk að vera með á námskeiðinu á þeim forsendum að ég væri hætt í neyslu. Það var mjög vel haldið utan um mig þarna.“ Eins og áður sagði gekk Birnu alltaf vel í námi í grunnskóla. Hún var þó mörgu búin að gleyma þegar hún byrjaði aftur í skóla. „Ég man vel eftir fyrsta stærðfræðitímanum. Þá fór ég að gráta því ég var búin að gleyma því hvernig ætti að reikna mínus og deilingu. Mér fannst það hræðilegt og var svartsýn á að ég gæti lokið nokkru námi.“ Eftir smá tíma fór að ganga betur í náminu og eiginlega betur en Birna hafði búist við. „Ég fékk trú á að ég gæti þetta og var ótrúlega hissa á sjálfri mér. Eftir námslínuna hóf hún svo nám hjá Menntastoðum sem er undirbúningur fyrir háskólabrú. Því námi lauk hún um síðustu áramót og er nú hálfnuð með háskólabrú Keilis í fjarnámi. Hún býr á Ásbrú, rétt hjá skólanum og mætir þangað á hverjum degi til að
læra. Námið þar gengur einnig mjög vel. Þegar því líkur um næstu áramót hefur Birna sett stefnuna á að hefja nám í rannsóknartölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. „Ég er búin að fara tvisvar sinnum á háskóladaginn að kynna mér námið og hlakka mikið til. Svo kemur bara í ljós eftir námið hvað ég fer að fást við.“
Býr að því að þekkja skuggahliðar lífsins
Það eru aðeins þrjú ár síðan Birna var í daglegri neyslu og þó svo að ýmislegt hafi gerst á þeim tíma finnst henni örstutt síðan. Í dag er Birna í góðu sambandi við fjölskyldu sína og segir lífið varla geta orðið betra. „Ég hefði aldrei trúað því að ég kæmist aftur á beinu brautina og myndi hafa það svona gott. Þetta leit svo illa út á tímabili.“ Hún lítur á tímann í neyslu sem reynslu sem hún muni alltaf búa að. „Mér finnst ég oft hafa betri sýn á lífið en jafnaldrar mínir því ég hef kynnst skuggahliðum þess. Ég nota þessa reynslu sem veganesti og held að ég sé miklu þakklátari fyrir það sem hef en ég myndi annars vera. Í dag er ég svo nægjusöm að það nær varla nokkurri átt. Þegar ég fékk leiguíbúð úthlutað á Ásbrú átti ég eiginlega ekki neitt til að setja inn í hana en var alveg sama. Ég var svo sátt að eiga loksins þak yfir höfuðið. Síðan þá er ég búin að byggja mig upp og bæta við því sem þarf á heimilið svo það er orðið mjög fínt.“ Þegar Birna hætti í neyslu skuldaði hún pening víða en er skuldlaus í dag og komin af vanskilaskrá og á nú allt sem hana áður dreymdi um, bæði veraldleg og andleg gæði.
ur Lundapart skilar til viðskiptavina
1.498 kr. kg KS Lambalærissneiðar Frosnar
1.998 kr. kg
498 kr. kg
KS Lambahryggur Frosinn, hálfur (lundapartur)
ólöglegri gjaldtöku ríkisins við útboð á kjúklingakvóta til innflutnings á kjúklingakjöti*
Danpo Kjúklingur Danskur, heill, frosinn
GOTT VERÐ Í BÓNUS
istvæn Brún og V g stjörnueg
100kr
200kr
verðlækkun pr. kg
12
verðlækkun pr. kg
598 1.498 kr. kg
kr. kg
SS Reykt folaldakjöt SS Saltað folaldakjöt Með beini - Verð áður 798 kr. kg
kr. kg
Stjörnu Brúnegg 12 stór egg, 816 g
kr. 816 g
698
298
egg
336 kr Verðlækkun
Búrfells Beikon Verð áður 1.698 kr. kg
149 kr. stk.
Íslenskir Tómatar Í lausu
1kg
Íslensk Agúrka ca. 350 g
1.459 kr. kg OS Samlokuostur Í sneiðum - Verð áður 1795 kr.
100%
9x250 m rúllur
safi
100 kr Verðlækkun
998 kr. 1 kg
Gevalia Kaffibaunir 1 kg, 2 teg.
59
kr. 250 ml
198 kr. 1 l
Floridana Heilsusafi Floridana Heilsusafi 1 lítri 250 ml
98 kr. 1 l
698
Trönuberjasafi 1 lítri
Bónus Salernispappír 9 rúllur, 3 laga - Verð áður 798 kr.
kr. 9 rl.
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 26. júní eða meðan birgðir endast
14
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 23. júní 2016
KJÖRFUNDUR VEGNA FORSETAKOSNINGA Í SANDGERÐISBÆ LAUGARDAGINN 25. JÚNÍ 2016 Kosið er í Grunnskólanum í Sandgerði. Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstaður opnar kl. 9.00 og lokar kl. 22.00. Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis fram að kjördegi á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar, í Vörðunni, Miðnestorgi 3. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar. Athygli er vakin á því að kjósendur geta kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá (http://www.kosning.is/forsetakosningar-2016/kjorskra/) Á kjördag mun kjörstjórn hafa aðsetur í Grunnskólanum í Sandgerði og í síma 899-6317.
SMÍÐAR PENNA ÚR VIÐI
Kjörstjórn Sandgerðisbæjar.
●●Fékk óvænt græjur til að smíða ● penna með notuðum rennibekk
FORSETAKOSNINGAR Laugardaginn 25. júní 2016 Kosið er í Gerðaskóla. Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstaður opnar kl. 10:00 og lokar kl. 22:00.
Í NÝJUM FÖTUM
Eftir að Finnbogi fær viðinn fer hann í þurrkun og tekur hún mislangan tíma eftir því hve stórir kubbarnir eru. Viðurinn er sagaður niður í ein-
FYLGSTU MEÐ Í... TÖLVUNNI
SNJALLSÍMANUM
Finnbogi segir best að nota harðan, þéttan og mjög vel þurran við þegar verið er að smíða penna. Efnið er viðkvæmt og þegar rifa kemur í það dettur það í sundur. Efniviðurinn kemur úr görðum hér á landi en líka frá útlöndum. „Ég hef verið að fá við frá Ameríku, Ástralíu, Brasilíu og víðar að,“ segir hann. Harðasti viðurinn á Íslandi er að sögn Finnboga reyniviður, birki og gullregn og er sá viður nógu þéttur í pennasmíðina.
Mikilvægt að viðurinn þorni vel
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Garðs
VF.IS
Grindvíkingurinn Finnbogi Unnsteinn Gunnlaugsson keypti sér rennibekk í Hafnarfirði fyrir áratug síðan. Rennibekknum fylgdi poki með ýmsu dóti, meðal annars græjum til að búa til penna. Hann prufaði græjurnar og síðan var ekki aftur snúið og hefur Finnbogi smíðað marga penna, flesta úr viði en einnig úr hornum af nautum og hreindýrum. Þar sem pennarnir eru gerðir fríhendis eru engir tveir eins.
SPJALDTÖLVUNNI
ingar og látinn þorna. Svo er hann sagaður niður í enn minni einingar og þannig koll af kolli þar til efnið er komið niður í rétta stærð fyrir penna. Stundum lokar Finnbogi endunum með kertavaxi svo þeir rifni síður. „Þegar viðurinn er orðinn nógu þurr bora ég í efnið og set túbur inn í. Svo þarf að ganga úr skugga um að stykkin passi saman þegar pennanum er smellt saman. Svo er bara rennt,“ segir hann. Pennarnir eru svo hertir að utan með lími og öðru svo þeir verði glansandi og haldi glansinum. Búnaðurinn inn í pennana kemur alla leið frá Ástralíu og segir Finnbogi það vera hagkvæmasta kostinn. Finnbogi er nú aðeins byrjaður að smíða penna úr hreindýrahornum og nautgripahornum. Hann segir töluvert erfiðara að smíða úr nautgripahornum en úr viði. „Þau eru með árhring eins og viðurinn en lausari. Þau geta því losnað í sundur og tætst upp.“ Finnbogi segir mjög gott og skemmtilegt að vinna með hreindýrahorn en að þau séu hörð. Finnbogi sækir handverksmarkaði og hefur gaman af því að selja með öðru handverksfólki og segir það einkar skemmtilegt fólk.
fimmtudagur 23. júní 2016
AFÞREYING:
ADELE Á HEIÐURSSESS Á SPOTIFY
Hólmfríður Árnadóttir tekur við starfi skólastjóra í Sandgerði í haust. Með henni á myndinni eru tvö barna hennar, þeir Hjörvar Hugi og Jóakim Jarl.
Hólmfríður Árnadóttir tekur við starfi skólastjóra í Sandgerði á næstunni. Hún er frá Grenivík við Eyjafjörð en hefur búið á Akureyri í mörg ár
og segir það dásamlegan stað. Maðurinn hennar er Hannes Jónsson úr Sandgerði. Hluti af tengdafjölskyldu Hólmfríðar býr í Sandgerði og hlakka þau fjölskyldan því mikið til að búa nálægt þeim. Hólmfríður er með meistarapróf í menntunarfræðum og sameinar þar vinnu og áhugamál sem er nám barna og það lærdómssamfélag sem þau alast upp í. Hún segir það leggjast afar vel í sig að flytja til Suðurnesja enda skólastjórastarfið heillandi. „Ég kem inn í faglegan og samheldinn starfsmannahóp og frábært námsumhverfi, það er virkilega vel búið að börnunum í Sandgerði svo ég get varla beðið til haustsins,“ segir hún. Hannes, maður Hólmfríðar er mikill fótboltaáhugamaður. Hann er þjálfari og knattspyrnudómari og synir þeirra eru allir í boltanum, sá elsti spilar með Reyni og þeir yngri hafa mætt á nokkrar æfingar með yngri flokkum Reynis-Víðis. Þau hlakka til að kynnast boltalífinu á Suðurnesjum, komandi frá góðu starfi KA og Þórs á Akureyri. Að auki eiga þau tvær stelpur sem þau „skildu eftir“ á Akureyri. Hólmfríður segir þær duglegar að ferðast svo þær hljóti að kíkja við, í það minnsta þegar þær fara á Keflavíkurflugvöll. Við fengum Hólmfríði til að segja okkur hvað hún gerir sér til afþreyingar þegar hún á tíma aflögu og kennir þar ýmissa grasa. Hólmfríður er vægast sagt mikill lestrarhestur og les að meðaltali fjörutíu bækur á ári.
Bókin
Ég er algjör lestrarhestur, les að meðaltali fjörutíu bækur á ári, fyrir utan þær bækur sem ég les fyrir strákana mína, segja mér skráningar fyrri ára. Já, ég skrái allt sem ég les og hvernig mér líkar það og hef verið í lestrarklúbbum síðustu ár, fyrst í Lespíum og svo í Yndislestrarhestum með frábærum stelpum. Ég skil ekki af hverju strákar vilja ekki vera með okkur! Það er svo gaman að ræða góðar bækur, já og slæmar! Ég les mest glæpasögur en er alltaf að heillast meira af ljóðum og ljóðrænum texta. Ég var einstaklega hrifin af bókinni um Thor Vilhjálmsson „Og svo tjöllum við okkur í rallið.” Mér fannst hún svo falleg og lýsa skemmtilega sambandi þeirra feðga Guðmundar Andra og Thors. Svo las ég loks „Náðarstund” eftir Hannah Kent. Ég hafði dregið það lengi vegna einhverra kjánalegra fordóma, bókin er hreint út sagt dásamleg. Tilfinningarússíbani af bestu gerð, þvílíkt vel gert hjá Hannah. Ég les líka barnabækur, helst bækur um fótbolta auðvitað en las „Mamma klikk” eftir Gunnar Helgason um jólin og hló mikið. Svo er Ingunn Snædal ljóðskáld í miklu uppáhaldi hjá mér, hún skrifar svo skemmtilega.
15
VÍKURFRÉTTIR
Tónlistin
Ég er ekki nógu dugleg að hlusta á tónlist, leyfi strákunum að stjórna græjunum og hlusta því mest á rapp og popp…misskemmtilegt efni, viðurkenni ég. Adele er þó mín uppáhalds söngkona og á heiðurssess á Spotify hjá mér. Annars ræður Spotify, stilli á Indie tónlist og shuffle og hlusta á það sem þaðan kemur.
ATVINNA
HREINGERNINGAR - RÆSTINGAR - AUKAVINNA Starfskraftur óskast í hreingerningar / ræstingar Okkur hjá Allt hreint vantar fólk til starfa bæði er um að ræða fullt starf og einnig vinna eftir samkomulagi. Mikil vinna framunda. Hæfniskröfur: Viðkomandi verður að vera amk 18 ára og vera með gild ökuréttindi Áhugasamir sendi tölvupóst á halldor@allthreint.is
WORK
STAFF NEEDED MUCH WORK AHEAD Requirements: Individuals must be at least 18 years old and have a valid driver’s licens Languages: Icelandic or good English We look for people for full time work (08:00 - 16:00 100%) and also part time If interested please send an e-mail to: halldor@allthreint.is
Sjónvarpsþátturinn
Ég er ein af Game of Thrones fíklunum, get ekki beðið eftir næsta þætti. Svona ævintýraheimar heilla mig. Ég lá með dætrunum yfir Harry Potter og Eragon eftir að hafa lesið bækurnar, auðvitað. Svo er ég líka afar mikið fyrir breska sakamálaþætti, Midsomer Murders, Lewis, Vera og Shetland, já og myndir eftir sögum Agatha Christie. Það er eitthvað við það að leysa gátu sem heillar mig, hver sá seki er en ég tek það fram að ég er afar léleg að finna út hver er morðinginn og get því horft á sömu þættina nokkrum sinnum, segir kannski meira um minnið hjá mér en nokkuð annað.
„ED FORCE ONE“ í Keflavík
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og eiginkona,
Ingigerður Guðmundsdóttir, Brekkubraut 9 Keflavík,
lést þann 19. júní sl. Útför verður miðvikudaginn 29. júní kl. 13:00 frá Ytri-Njarðvíkurkirkju Fyrir hönd fjölskyldunnar Friðrik Már Valgeirsson, Ingi Garðar Friðriksson, Magnea Friðriksdóttir og Sandra Dögg Friðriksdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður K. Eiríksson, ■■Júmbóþota Air Atlanta Icelandic, Ed Force One, hafði tvívegis viðkomu í Keflavík síðustu vikuna. Vélin, Boeing 747-400 TF-AAK, hefur verið notuð á Book of Souls tónleikaferð Iron Maiden. Vélin kom hingað til lands til að sækja 330 Íslendinga, starfsmenn Atlanta, sem svo fóru til Marseille á landsleik Íslands og Ungverjalands. Vélin hefur verið áberandi víða um heim á tónleikaferðalagi Iron Maiden, enda merkt sveitinni í bak og fyrir. Vélin lenti í hnjaski þar sem tveir mótorar skemmdust í Chile, þegar starfsmenn flugvallarins voru að draga hana. Á ótrúlegan hátt tókst Air Atlanta að koma flugvélinni í lag á met tíma og flugvélin missti ekki af nema tvennum tónleikum. Íslenskir starfsmenn Air Atlanta fengu þá mikið hrós á einum tónleikum sveitarinnar í Suður Ameríku. Vélin kom svo aftur til Íslands á sunnudag með farþegana 330. Nú hefur vélin verið send utan til breytinga þar sem merkingum verður breytt og vélin innréttuð að nýju, enda er til að mynda dansgólf í þotunni en þess verður ekki þörf í næstu verkefnum hennar.
Starfsmenn Íslandsbanka réttu hjálparhönd Vaskur hópur starfsmanna Íslandsbanka í Reykjanesbæ rétti íbúum við Suðurgötu 19 hjálparhönd á dögunum. Í húsinu býr fólk með fötlun. Starfsfólk Íslandsbanka bauð fram krafta sína við garðvinnu, hreinsuðu beð og runna og slógu grasið þannig að nú er garðurinn og umhverfi hússins komið í sumarbúning. Frá þessu var greint á vef Reykjanesbæjar. Íbúarnir við Suðurgötu 19 voru ánægðir með framtakið, fylgdust með og tóku þátt eftir bestu getu. Á vef Reykjanesbæjar er starfsfólki Íslandsbanka færðar þakkir fyrir hjálpsemina.
Norðurkoti 3, Sandgerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnudaginn 19. júní. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði, mánudaginn 27. júní kl. 14:00. Sóley Björg Færseth, Þorbjörn Guðjónsson, Erla Ósk Sigurðardóttir Færseth, Kristján Guðmundsson, Sigríður Hanna Sigurðardóttir, Páll Þórðarson, Petrína Freyja Sigurðardóttir, Böðvar Þórisson, Einar Sigurðarson, Jennifer Randall, barnabörn og barnabarnabörn.
16
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 23. júní 2016
HEITASTI KLÚBBURINN Í
BÆNUM ●●Hakkit á Ásbrú er tæknilegt samfélagsverkefni í stöðugri þróun.
Spánverjinn Xabier Þór Tejero Landa er einn af fjölmörgum frumkvöðlum á Ásbrú. Hann ásamt fleirum reka saman Hakkit í Eldey á Ásbrú. Hakkit er stafræn smiðja eða svokallað gjörðapláss sem er öllum opið. Þar má finna ýmis tæki og tól. Allt frá þrívíddar prentara og leiser skurðavél, til sjónvarpa og tölva sem hafa fundið sér nýtt heimili. Xabier kom hingað til lands þegar hann var 17 ára gamall en hann kynntist íslenskri stelpu á Spáni. Það samband entist hins vegar ekki en hann ílengdist þó á Íslandi. Eftir nokkur ár var hann svo kominn með fjölskyldu hér á landi og hefur núna verið hér í tæp 14 ár. „Mér líður svo vel hér og nenni ekki að fara aftur til Spánar. Þar er svo mikið stress en á Íslandi er allt svo rólegt,“ segir Xabier við blaðamann Víkurfrétta. „Ég hef alltaf verið tæknilegur og hef verið að leika mér með rafmagnsdót frá því að ég var krakki,“ segir Xabier. Hann fór í framhaldsskóla á Íslandi og hafði klárað um 200 einingar en kláraði enga braut. Það var þá sér í lagi vegna íslenskunnar. Hann var þá líka að vinna og hafði vart efni á því að vera í skóla. Hann var að vinna sem kokkur í eldhúsi í nokkur ár en varð svo þreyttur á því. Loks fékk hann vinnu í tölvubúð en það hafði hann alltaf langað til að gera. Þar fékk hann tækifæri til þess að sækja háskólanám. Xabier byrjaði nám við skólann árið 2012 og útskrifaðist um síðustu jól. Hann er núna orðinn kennari við skólann og íslenskan er ekkert að
þvælast fyrir honum. Hann hefur búið á Ásbrú síðan hann byrjaði í náminu og er staðráðinn í því að taka þátt í uppbyggingu á svæðinu. Hakkit varð til þegar nokkrir nemendur í tæknifræði við Keili voru með þá hugmynd að setja upp hálfgerða tæknismiðju. Einhverja aðstöðu þar sem hægt væri að fikta með alls kyns dót. „Snjóboltinn hélt svo bara áfram að rúlla. Við fengum aðstöðu í Eldey hér uppi á Ásbrú og fengum einnig styrki til þess að koma verkefninu af stað. Við vildum fá aðstöðu þar sem við gætum verið með sérstakan klúbb, einhverja tæknismiðju eða skapandi rými,“ segir Xabier sem vill auka al-
ÆVINTÝRAGARÐUR
HJÁ HELGA VALDIMARSSYNI VIÐ URÐARBRAUT Í GARÐI
OPIÐ Á SÓLSETURSHÁTÍÐ
Laugardag og sunnudag frá kl. 13:00 - 17:00. Verið velkomin.
Í húsnæði Hakkit er meðal annars þrívíddarprentari, leiser-skurðavél og fræsivél, ásamt tölvum sem nýta má.
menna þekkingu á tækni. Í húsnæði Hakkit er mikið verið að endurnýta gömul raftæki en sjálfur hefur Xabier stundað það frá æsku að skrúfa sundur og saman hin ýmsu tæki. „Það vantar ennþá að kenna krökkum um tækni og rafmagnsfræði. Við erum núna að horfa á það að efla tækniþekkingu, ekki bara á svæðinu heldur á landinu öllu.“
Hakkit sem valfag í Háleitisskóla
Næsta haust verður það valgrein í Háaleitisskóla á Ásbrú að taka námskeið hjá Hakkit. Þegar eru 15 nemendur búnir að skrá sig í fagið. Hakkit hefur einnig staðið fyrir tómstundanámskeiðum á kvöldin. Xabier kýs
að kalla það tæknifélag. „Rétt eins og það er til júdófélag eða fótboltafélag þá er þetta tæknifélag. Þar geta unglingar komið inn og leikið sér og lært um tækni og rafmagn. Það eru fullt af krökkum sem passa ekki í íþróttafélög en passa mjög vel hérna. Þau geta hér bætt við sig mikilli þekkingu á vísindum.“
Fyrir alla sem hafa áhuga á að fikta
Krakkarnir fá frekar lausan tauminn en þau fá líka sérstök verkefni sem þau þurfa að leysa. Þau læra mest með því að gera, að sögn Xabiers. „Þetta er svona óformlegur fiktara skóli. Mér finnst fínt að horfa á þetta þannig. Það er þó ekki búið að skil-
greina þetta í samfélaginu og þetta er samfélagsverkefni, ekki eigið fyrirtæki. Við erum að þessu til þess að gera samfélagið betra.“ Hugmyndin er að fá menntastofnanir og stærri fyrirtæki á Suðurnesjum til þess að taka ábyrgð á verkefninu. Þannig að hægt sé að borga leigu og laun og efla þannig starfið. „Þetta er fyrir alla sem hafa áhuga á að fikta. Það er rosalega mikil sköpun í gangi. Fólk kemur oft með einhverjar hugmyndir sem það getur ekki framkvæmt. Þá er gott að leita til okkar. Þetta er bara klúbbur, heitasti klúbburinn í bænum,“ segir Xavi að lokum og hlær.
fimmtudagur 23. júní 2016
17
VÍKURFRÉTTIR
Láta EM ekki trufla Sólseturshátíð í Garði þess sem verða við íþróttamiðstöðina síðdegis. Þá verður Nesfiskgrill við íþróttahúsið klukkan 18. Þá verður einnig keppnismót í strandblaki á Garðskagavellinum. Á morgun, föstudag, er hverfagrillið, strandblak, sundlaugarpartý og svo miðnæturmessa í Útskálakirkju. Á laugardag er fjölskyldudagskrá á Garðskaga með fjölbreyttri dagskrá. Dagurinn hefst reyndar með Sólseturshátíðarhlaupi og síðdegis verður sjósund á Garðskaga. Guðlaug segir að það sé markmið þeirra sem standa að Sólseturshátíðinni í Garði að halda kostnaði fyrir gesti í lágmarki. Ekki sé rukkað fyrir aðgang að leiktækjum og uppákomum. Þó sé þátttökugjald í Strandblakmót, Sólseturshlaup, Zumba og spinning. Aðrar uppákomur séu gjaldfríar. Hægt er að kynna sér dagskrá Sólseturshátíðarinnar nánar á vef Sveitarfélagsins Garðs á vefslóðinni. www.svgarður.is.
Bæjarhátíð Garðmanna, Sólseturshátíðin í Garði, nær hámarki á laugardaginn með mikilli fjölskylduhátíð á Garðskaga. Að deginum til verður dagskrá fyrir börnin og svo verður kvöldskemmtun með fjölbreyttri tónlistardagskrá. Það er Knattspyrnufélagið Víðir sem sér um hátíðarhöld í tengslum við Sólseturshátíðina fyrir Sveitarfélagið Garð. Í samtali við Víkurfréttir sagði Guðlaug Sigurðardóttir, formaður Víðis, að nú væru nokkuð sérstakar aðstæður. Fjölmargir íbúar í Garði væru á EM í Frakklandi og einnig stór hópur á knattspyrnumóti í Vestmannaeyjum. Þau sem eftir eru í Garðinum ætla hins vegar ekki að láta EM hafa áhrif á hátíðarhöldin og ætla að bjóða upp á ósvikna Garðstemmningu alla helgina. Dagskráin hefur staðið frá því á mánudagskvöld. Í dag, fimmtudag, er dagskrá við íþróttamiðstöðina og á Garðskaga. Brúðubíllinn, Bubbleboltar og Zumba eru meðal
Sumarvörur í Múrbúðinni Bláa lónið hlýtur Bláfánann í 14. sinn
53.592
34.392
MOWER CJ20
Sláttuvél m/drifi, BS 6,0 hp mótor, sláttubreidd 51cm. Rúmtak 190 CC, skurðarvídd 51cm/20”, sjálfknúin 3,6 km/h, safnpoki að aftan 65 L, hliðar útskilun, skurðhæð og staða 2575mm/8
verð áður kr. 42.990
MOWER CJ18
20%
■■Bláfáninn var dreginn að húni í Bláa Lóninu í 14. sinn á dögunum. Fánanum hefur Bláa Lónið flaggað Bláfánanum árlega síðan árið 2002. Bláfáninn er alþjóðleg viðurkenning sem veitt er til að stuðla að verndun umhverfis smábátahafna og baðstranda. Salome Hallfreðsdóttir, verkefnisstjóri Bláafánans hjá Landvernd, afhenti Bláfánann fyrir hönd Landverndar. Í máli hennar kom meðal annars fram að Bláa Lónið er einn tveggja staða á Íslandi sem flaggar Bláfánanum árið um kring. Meginmarkmið Bláfánaverkefnisins eru bætt umhverfisstjórnun, góð hreinlætisaðstaða, gæði vatns, gott aðgengi að upplýsingum um þjónustu á viðkomandi svæði og slysavarnir. Mikilvægur liður í Bláfánaverkefninu er að efla almenna umhverfisvitund og er það gert með lifandi fræðslu og upplýsingum um náttúru og viðkvæm svæði á Bláfánastöðum.
AFSLÁTT UR
Sláttubreidd 46cm. BS 3,5hp mótor, rúmtak 158 CC, skurðarvídd 46cm/18”. Safnpoki að aftan 60 L, skurðhæð og staða 25-85mm/8
CE/GS VOTTUN
Kailber KG-1503 gasgrill
20%
3 x 3KW brennarar, grillflötur 2520 cm2, 9KW
35.120
AFSLÁTT UR
verð áður kr. 43.900
7.490 LuTool Fjölnota sög 600W fyrir málm, við, flísar og steypu, 3 blöð fylgja
13.990
Mei-9993150 Upptínslutól 60cm LuTool fjölnota hjakktæki til viðhalds - þráðlaus með 12V LioIon rafhlöðu
11.990
20%
8.990
SAN-SM-CLE206 Fjölnota pallur/trappa
14.392
LuTool fjölnota hjakktæki til viðhalds - rafmagnstæki 300W.
áður kr. 17.990 pallur fylgir
7.890 LuTool 32mm blað í fjölnota tæki
■■Mikið annríki var hjá sjúkraflutningsmönnum Brunavarna Suðurnesja um nýliðna helgi. Samtals voru 34 sjúkraflutningar frá þjóðhátíðardeginum 17. júní, sem var sl. föstudag, og fram á sunnudagskvöld. Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, fóru sjúkraflutningamenn í þrettán sjúkraflutninga. Tíu voru á dagvaktinni og þrír á næturvaktinni. Á laugardaginn voru fimm sjúkraflutningar. Á sunnudag var mjög mikið annríki en þá voru fjórtán sjúkraflutningar á dagvaktinni og tveir á næturvaktinni. Þar af voru sex flutningar til Reykjavíkur. Sex sinnum gerðist það að tveir bílar voru í útkalli á sama tíma og einu sinni voru þrír bílar í útkalli samtímis. Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Suðurnesja var bæði um að ræða útköll vegna slysa og veikinda.
1.595
AFSLÁTT UR
2.490
Hjólbörur 80L
ODEN EÐAL OLÍA á palla. Hágæða Silikonalkyd efni. 3 l.
4.390
LuTool 12 blaða sett
390
4.990
8.590
Cibon #1630 Hellubursti framlengjanlegt skaft
Verkfærakista & stóll í garðinn
Cibon Strákústur 60cm
1.895
1.695
4.792 20% áður kr. 5.990
20%
AFSLÁTT UR
Weber Milligróf múrblanda 25 kg 1.890
LuTool Pússivél 560W m/hjámiðju snúning
395
Lavor One Plus 130 háþrýstidæla 130 Max bar 420min Litrar Fylgihlutir: Burstar, sápubrúsi & Turbóstútur.
LuTool 7 blaða sett
Annríki í sjúkraflutningum á langri helgi
11.992 verð áður kr. 14.990
Weber Gróf Múrblanda 25 kg 1.690
DEKAPRO útimálning, 10 lítrar
Proflex Nitril vinnuhanskar
Made by Lavor
verð áður kr. 66.990
einnig 45cm kr. 1.690
AFSLÁTT UR
Bio Kleen pallahreinsir
895
5 lítrar kr. 3.295
Kapalkefli 3FG1,5 25 mtr Meister jarðvegsdúkur 9961360 5x1,5 meter
Tunnubali á hjólum
795
Gróðurmold 20 l
490
4.990
Tilboð: Kaupir 4, greiðir f. 3
Kapalkefli 10 mtr
2.990 Flextub 15 lítra
990
42lítra kr. 1.590
6.190
15 metra rafmagnssnúra
3.190
Steypugljái á stéttina í sumar
Tia - Garðverkfæri
590
pr stk
Superseal og Clear Guard steypugjái Steypugljáinn sem endist! Mesto 3232R 5 lítra í garðinn Reykjavík
Kletthálsi 7
Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær
Fuglavík 18
Opið virka daga kl. 8-18
5.990 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Neytendur athugið! Múrbúðin selur allar vörur sínar á lágmarksverði fyrir alla, alltaf. Gerið verð- og gæðasamanburð!
18
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 23. júní 2016
SMÁAUGLÝSINGAR Til leigu Appartment for rent 150sq.m. in best location in Keflavik. 3 bedrooms and big livingrooms and outdoor patio. 190,000 kr.+ heating and electric. first month , last month and 1 month guarenty, up front payment. reccomentadion may be needed, email to qualitytradex@gmail.com
Óskast Kona einsömul óskar eftir 2-3 herb. íbúð strax eða frá 1 júli. Er reglusöm. Upplýsingar í síma 861 8311. 45 ára karlmaður óskar eftir vinnu á Suðurnesjum frá 1.sept nk. Er ýmsu vanur, flest kemur til greina. Upplýsingar í síma 865 5719, Vigfús.
Fjölmenn ráðstefna um litháískt móðurmál Ráðstefnan Vinabrú var haldin í Háaleitisskóla á Ásbrú helgina 10. til 12. júní síðastliðinn. Vinabrú er samstarfsvettvangur móðurmálsskóla litháískra innflytjenda í Evrópu og tengir saman alla skólana, kennara, nemendur og foreldra. Jurgita Milleriene er kennari við Háaleitisskóla og litháískukennari og einn skipuleggjanda ráðstefnunnar. Hún segir markmiðið með henni að tengja saman alla þá er koma að kennslu í litháísku utan Litháens, deila reynslu, vinna að bættum kennsluháttum og vinna að skóla- og foreldrasamstarfi. Um 160 manns tóku þátt í Vinabrú og segir Jurgita hafa gengið vonum framar. „Við fengum ómetanlega hjálp frá Háaleitisskólanum, húsvörður skólans var alltaf til staðar og einnig stjórnendur skólans þær Anna
Guðmundsdóttir og Jóhanna Sævarsdóttir. Á ráðstefnunni tóku þær á móti menntamálaráðherra Litháens og fræddu um íslenska menntakerfið. Einnig voru mjög öflugir fyrirlesarar sem komu frá Litháen og Bretlandi og fjallað var um tvítyngi, um kosti þess og galla, og um mikilvægi þess fyrir sjálfsmynd barnanna. Áhersla var lögð á mikilvægi þess að tengjast vel menningu og starfsemi þess lands sem krakkarnir búa nú þegar,“ segir Jurgita.
Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
sýnir í Sandgerði á Listatorgi við Vitatorg. 24. júní - 3. júlí 2016 Formleg opnun sýningarinnar verður föstudaginn kl. 16:00. Tónlistaratriði og léttar veitingar. Allir velkomnir.
Flestir gestanna dvöldu áfram hér á landi að ráðstefnunni lokinni og skoðuðu landið. Hópurinn fór í skoðunarferð um Reykjanesið og að sögn Jurgitu höfðu margir orð á því að umhverfið væri þannig að líkast væri að þau hefðu lent á tunglinu.
VEGNA FORSETAKOSNINGA Í GRINDAVÍK LAUGARDAGINN 25. JÚNÍ 2016 Kosið er í Grunnskólanum Ásabraut 2.
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstaður opnar kl. 9.00 og lokar kl. 22.00. Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis fram að kjördegi á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Grindavíkur. Athygli er vakin á því að kjósendur geta kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá (http://www.kosning.is/forsetakosningar-2016/kjorskra/) Kjörstjórn Grindavíkurbæjar.
Í NÝJUM FÖTUM
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00
Myndlistarfélag Árnessýslu
KJÖRFUNDUR
VF.IS
Verið velkomin
TÖLVUNNI
FYLGSTU MEÐ Í...
SNJALLSÍMANUM
SPJALDTÖLVUNNI
Sjálfboðaliðar fegruðu útisvæðið á Tjarnarseli Árlegur sjálfboðaliðadagur leikskólans Tjarnarsels var í síðustu viku. Þá komu saman starfsfólk, foreldrar, leikskólabörn og aðrir fjölskyldumeðlimir til að smíða, steypuvinna, gróðursetja, hanna og fegra á fallega úti-leiksvæði skólans. Vorið 2013 tók fyrrnefndur hópur höndum saman og umbylti útisvæði leikskólans og notaði til þess sem mest af endurnýtanlegum og náttúrulegum efnivið, með sjálfbærni, lýðræði og sköpun að leiðarljósi. Síðan þá hafa verið haldnir vinnudagar á hverju vori sem einkennst hafa af vinnusemi, krafti og gleði. Hönnun útisvæðisins byggir á því að börn fái að upplifa árstíðabundnar
Söfnuðu fyrir Rauða krossinn ■■Þeir Alexander Máni Ívarsson og Kristinn Ágúst Kristinsson í Vogum héldu tombólu á dögunum og söfnuðu 5.357 krónum sem þeir afhentu Rauða krossinum. Drengirnir beittu nokkuð frumlegri leið til að safna því þeir buðu fólki að segja frá uppáhalds litnum sínum og greiða fyrir.
breytingar í náttúrunni; þegar gróður og smádýr vakna til lífsins á vorin, þegar allt er í blóma á sumrin, breytingar og litbrigði náttúrunnar á haustin og sofandi gróður á veturna. Einnig að skapa börnunum umhverfi sem kennir þeim að njóta náttúrunnar og bera virðingu fyrir henni. Verkefnið hefur vakið töluverða athygli og hafa leik- og grunnskólakennarar heimsótt skólann til að kynna sér og skoða útisvæðið. Tvívegis hefur verkefnið hlotið styrk úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla og nú á dögunum veitti stjórn Fríhafnarinnar leikskólanum styrk úr pokasjóði sínum.
fimmtudagur 23. júní 2016
19
VÍKURFRÉTTIR
ÍÞRÓTTIR
Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is
SNAG – golf á Heilsuleikskólanum Háaleiti Krakkarnir í Háaleitisskóla voru áhugasöm um SNAG-ið. ÍÞRÓTTIR 20.06.201614:03ÍÞRÓTTIR20.06.201 614:03Fyrri myndNæsta mynd SNAG – golf á Heilsuleikskólanum Háaleiti Á heilsuleikskólanum Háaleiti er sífellt verið að kynna fyrir leikskólabörnunum fjölbreytta íþrótta- og afþreyingarmöguleika með framtíðina í huga. Eitt af því er SNAG – golfið. Leikurinn getur virkjað áhuga og löngun barna til að læra í gegnum leik. Samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla (2011) er leikurinn órjúfanlegur þáttur bernskuáranna og hornsteinn leikskólastarfs. Þar kemur jafnframt fram að leikurinn kallar á félagsleg samskipti, tilfinningatengsl, hreyfingu og fjölbreytta notkun tungumálsins.
Loksins hola í höggi hjá Georg Úrsmiðurinn þaulreyndi, Georg V. Hannah, fagnaði þjóðhátíðardeginum með heldur óvenjulegum hætti í ár. Georg, sem hefur lagt stund á golfíþróttina í tæpa hálfa öld, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í fyrsta sinn þann 17. júní á Hólmsvelli í Leiru. Draumahöggið kom á áttundu braut en hún er um 130 metrar. Georg var með 7-tré að vopni í högginu og hitti boltann ágætlega sem lenti í flatarkanti og rúllaði ofan í, án þess að úrsmiðurinn sæi það enda liggur brautin
nokkuð upp í móti og því sjá kylfingar ekki alltaf í holu. „Þetta er búið að taka tímana tvenna en gaman þegar það kemur loksins,“ sagði Georg, sem hefur haft Leiruna sem sitt annað heimili í hálfa öld. Með honum í ráshópi voru kona hans Eygló Geirdal og Jón Kr. Magnússon. Georg getur nú boðið Eygló á Hótel Keflavík í gistingu og huggulegheit því hótelið gefur öllum þeim sem fara holu í höggi á þessu ári gistingu með morgunmat.
Mjög þægilegt er að kenna þeim golfíþróttina með SNAG–inu þar sem öll tækni er sett þannig fram að hún er sett í samhengi við t.d stafi sem auðveldar þeim að átta sig á hvernig þau eiga að framkvæma hlutinn. Einnig er SNAG-ið sjónrænt sem hjálpar þeim enn frekar með t.d. stöðu.
Kylfur, boltar og önnur áhöld eru gerð úr þannig efnum að þau eru nánast hættulaus. Heilsuleikskólinn Háaleiti fékk lánað SNAG – golfsett til að leyfa elstu börnum leikskólans að prófa, börnin voru mjög spennt og áhugasöm um að
læra rétta tækni undir stjórn Bjarkar Birgisdóttur og Ástu Katrínar Helgadóttur. Tilraunin tókst mjög vel og voru börnin glöð og ánægð með að hafa fengið tækifæri til að prófa SNAG og spurðu: hvenær förum við aftur í SNAG?
„Þetta er mjög fínn klúbbur með góða aðstöðu og allir hafa tekið mér mjög vel,“ segir Samúel Kári sem ætlar sér stóra hluti í norska boltanum.
FÓTBOLTASNILLINGUR VIKUNNAR Erlendur Guðnason er fótboltasnillingur vikunnar
SÁ SÖGULEGAN Æskuvinir saman í norska boltanum LEIK GEGN PORTÚGAL Á EM ●●Samúel Kári til liðs við Vålerenga þar sem Elías Már hefur komið sér vel fyrir ●● Er kominn til þess að spila
Samúel Kári Friðjónsson heldur á vit nýrra ævintýra í fótboltanum eftir að hafa dvalið á Englandi hjá liði Reading síðastliðin rúm þrjú ár. Samúel hefur nú samið við norska úrvalsdeildarliðið Vålerenga þar sem hann hittir fyrir æskuvin sinn Elías Má Ómarsson sem leikið hefur með liðinu í eitt ár.
Fótboltasnillingur vikunnar er Njarðvíkingurinn Erlendur Guðnason en hann er 12 ára. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er fyrirmynd Erlends og ætlar hann líkt og Gylfi að verða atvinnumaður í boltanum. Erlendur er greinilega duglegur að æfa tæknina því hann getur haldið boltanum 220 sinnum á lofti. Hvað hefur þú æft fótbolta lengi? Ég hef æft fótbolta með Njarðvík frá 5 ára aldri. Hvaða stöðu spilar þú? Ég spila oftast á miðjunni. Hvert er markmið þitt í fótbolta? Að verða atvinnumaður í fótbolta. Hversu oft æfir þú á viku? Fjórum sinnum í viku. Hver er þinn eftirlætis fótboltamaður/kona? Gylfi Þór Sigurðsson.
Áttu þér einhverja fyrirmynd í boltanum? Já, Gylfa Þór Sigurðsson. Hefurðu farið á fótboltaleik erlendis? Já, Bröndby gegn OB í Danmörku og svo mun ég sá ég tvo leiki á EM í Frakklandi, ÍtalíaB el g í a o g Ísl and Portúgal. Hversu oft getur þú haldið á lofti? 220 sinnum. Hvaða erlenda félag heldur þú upp á? Manchester United.
„Við erum auðvitað búnir að vera æskuvinir síðan við vorum sex ára og spiluðum í mörg ár saman. Við erum góðir vinir og þetta er mjög þægilegt fyrir okkur báða. Vonandi vegnar okkur báðum vel,“ segir Samúel þegar blaðamaður Víkurfrétta heyrir í honum frá hótelherbergi í Osló. Samúel heimsótti félagið fyrir skömmu og þá gisti hann hjá Elíasi sem fræddi hann um norska boltann og félagið Vålerenga. Þeir kumpánar eru einnig samherjar í 21 árs liði Íslands og hafa verið samferða í gegnum öll yngri landsliðin. Samúel viðurkennir að það sé ákveðinn léttir að vera búinn að ganga frá sínum málum en hann hafði ákveðið að segja skilið við Reading í lok síðasta tímabils. „Mér líst bara mjög vel á þetta og það má segja að ég sé að fá nýtt upphaf. Ég taldi þetta vera góða leið til þess að fá aftur leikgleðina.“ Á þeim árum sem Samúel dvaldi í Englandi gekk hann í gegnum tvær
þjálfaraskiptingar hjá Reading. Hann segir að undir lok síðasta tímabils hafi hann því ákveðið að leita annað og byrjað að líta í kringum sig.
Hugsaði um að spila heima
Fjöldi liða leitaðist eftir kröftum Samúels. Lið á norðurlöndum, Eng-
Elías Már Ómarsson í leik með Vålerenga
landi og í efstu deild á Íslandi. „Ég hugsaði um að spila í Keflavík og þá líka í Pepsi-deildinni en tók þá ákvörðun að vera í fríi eftir langt tímabil,“ segir Samúel. Nú nýlega orðinn tvítugur tekst Samúel á við ævintýri í nýju landi og í deild sem hann þekkir lítið til. Friðjón, faðir Samúels, bjó í Noregi í mörg ár og talar vel um land og þjóð, það hjálpaði við þegar ákvörðun var tekin sem og fyrir það að Elías spilar með liðinu, það var ekkert að skemma fyrir, að sögn Samúels. Samúel reiknar með því að vera í stöðu miðjumanns sem fær bæði að sækja og verjast, „box to box,“ leikmaður eins og það kallast á ensku. „Ég er kominn hingað til þess að spila, það er bara þannig,“ segir hinn metnaðarfulli leikmaður sem ætlar sér að vera hluti af hóp u21 landsliðsins sem keppist um að komast í lokakeppni EM í þeim aldurshópi.
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001
Mundi Var það fánastöngin inn hjá Marka-Jóni?
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
UPPLIFÐU EM Í NÝJU SONY SJÓNVARPI! ÁSKRIFT AÐ EM HJÁ SÍMANUM FYLGIR ÖLLUM SJÓNVÖRPUM
Í ÞESSARI VIKU!
FINNBOGI RENNIR PENNA ÚR ÍSLENSKU TRÉ
SONY WD6
KAFFIHÚS Í GAMLA VITANUM Á GARÐSKAGA
40" – Verð: 99.990 kr. 48" – Verð: 129.990 kr. Örþunnt og flott Full HD sjónvarp. Frábær myndgæði, nettengjanlegt og innbyggt Wi-Fi.
5 ÁRA ÁBYRGÐ
5 ÁRA ÁBYRGÐ
SONY W8 50" – Verð: 149.990 kr. 55" – Verð: 179.990 kr.
STYTTURNAR HANS HELGA
Sérlega vandað Full HD sjónvarp með frábærri X-Reality PRO myndvinnslu. Android stýrikerfi og innbyggt Wi-Fi.
SONY HTCT780 heimabíó 5 ÁRA ÁBYRGÐ
SONY XD85 55" – Verð: 289.990 kr. 65" – Verð: 419.990 kr. 75" – Verð: 799.990 kr.
Verð: 89.990 kr. Tilboð:71.920 kr. Stórt hljóð fyrir lítið pláss. Aðeins einn hátalari og þráðlaust bassabox sem skilar frábærum hljómgæðum.
Ómótstæðileg örþunn hönnun og fullkomin baklýsing. 4K Ultra HD og HDR sem tryggir einstök myndgæði.
SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA
ER Á DAGSKRÁ ÍNN OG VF.IS ALLA FIMMTUDAGA KL. 21:30 ÞÁTTURINN ER Í HÁSKERPU Á VEF VÍKURFRÉTTA
HAFNARGATA 40 - S. 422 2200
Úrvalið af tölvu og fylgihlutum eru í Omnis
REYKJANESBÆ