Skip to main content

26. tbl 2016

Page 1

• fimmtudagurinn 30. júní 2016 • 26. tölublað • 37. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Ætla að útrýma kynbundnum launamun ■■Kynbundinn launamunur hjá Grindavíkurbæ er 0,8 prósent af grunnlaunum en 4,7 prósent af heildarlaunum. Á vef Grindavíkurbæjar segir að undanfarið hafi verið fjallað um niðurstöður könnunar á kynbundnum launamun meðal félagsmanna BHM sem mælist 11,7 prósent. Í fréttaflutningi hafi verið vísað til þess að önnur s v e i t a r fé l ö g en Reykjavík standi sig ekki þegar kemur að því að minnka og útrýma kynbundnum launamun. Grindavíkurbær telur þá fullyrðingu ekki eiga við um starfsemi sína. Á landsvísu er Grindavík í 3. sæti af 49 hvað varðar grunnlaun, en í 13. sæti hvað varðar heildarlaun. Undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að því að draga úr óútskýrðum launamun, m.a. með breytingum á akstursgreiðslum og yfirvinnu. Stefna Grindavíkurbæjar er að útrýma launamun kynjanna, enda réttlætismál að greidd séu sömu laun fyrir sömu vinnu og hæfni. Samkvæmt framkvæmdaáætlun Jafnréttisstefnu Grindavíkurbæjar fer næsta könnun fram 2017.

Ekkert virðist stöðva Víðismenn ●●Ósigraðir í 3. deild karla í fótbolta

■■Það var sannarlega fjör hjá Garðbúum um liðna helgi þegar árleg Sólseturshátíð fór fram. Hér eru hressir peyjar á hátíðarsvæðinu, þeir Jón Grétar sem er fremstur, og svo tvíburarnir Arnar og Brynjar.

■■Víðismenn hafa unnið alla fimm leiki sína í 3. deild karla í fótbolta það sem af er tímabili. Þeir gerðu góða ferð til Vestmannaeyja á þriðjudag þar sem þeir báru sigurorð af KFS 1-2. Víðismenn eru á toppnum með fullt hús stiga en þeir eiga leik til góða á flest lið deildarinnar. „Við stefnum klárlega að því að komast upp um deild. Það er gaman af því hvað það er mikið af heimamönnum í liðinu,“ segir markahrókurinn Helgi Þór Jónsson sem hefur skorað átta mörk í sumar. Víðismenn hafa farið gríðarlega vel af stað eins og áður segir og það er stemning í hópnum. „Þetta er hörku hópur. Það er samkeppni um allar stöður og menn eru því á tánum,“ bætir Helgi við en viðtal við hann má lesa blaði vikunnar. // 15

Pattstaða í Helguvíkurhöfn setur hömlur á atvinnulífið

FÍTON / SÍA

Hafnarstjóri Reykjaneshafnar segir að verði ekkert að gert til uppbyggingar í Helguvíkurhöfn þá muni það hamla atvinnulífi og uppbyggingu á svæðinu. Umferð er stöðugt að aukast við höfnina í takt við aukin umsvif í Helguvík. Hafnarstjóri segir að það fé sem leggja þurfti til vegna hafnarinnar sé ekki mikið sé horft til þeirra tekna sem munu hljótast af starfseminni þar á næstu árum. Skip sem var að koma með efni til vinnslu hjá United silicon í vikunni þurfti að bíða í 12 klukkustundir eftir því að fá afgreiðslu við höfnina í Helguvík. Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri segir að þetta hafi ekki gerst áður í Helguvík og að þetta stafi af aukinni umferð við höfnina í tengslum við aukna atvinnustarfsemi þar. Það mun bara bætast við

einföld reiknivél á ebox.is

umferðina að sögn Halldórs. Bæðu muni koma meira hráefni til Helguvíkur og svo fara að streyma þaðan afurðir innan skamms, sem kallar á frekari skipakomu. „Mín sýn er sú að við verðum að hafa okkur alla við að haga þessu þannig að hlutirnir gangi upp,“ segir Halldór. Í byrjun árs 2015 óskaði Reykjaneshöfn eftir að hafnarframkvæmdir í Helguvík kæmust inn á samgönguáætlun 2015 til 2018 eftir að ný hafnalög höfðu tekið gildi. Halldór segir að sú stækkun sem fyrirhuguð var á viðleguköntum í Helguvík sé grunn forsenda fyrir því að geta tekið við því sem er að gerast á næstu tveimur árum. Áætlaður kostnaður vegna stækkunarinnar er tæplega 1,2 milljarðar. Halldór telur að að þær fjárhæðir sem þurfi til Helguvíkur séu

ekki miklar sé horft til þeirra tekna sem munu hljótast af starfseminni þar á næstu árum. „Ef ég horfi til tíu ára þá tel ég líklegt að tekjustreymið sem yrði við þessa stækkun yrði í kringum þrjá milljarða.“ Halldór segir að það byggist þó á því að allar hugmyndir um uppbyggingu í Helguvík verði að ganga eftir. Ef Helguvíkurhöfn kæmist inn á samgönguáætlun þá yrði framkvæmdin ríkisstyrkt að 60 prósentum líkt og í öðrum höfnum landsins. „Það eru þá eftir um 500 milljónir sem Reykjanesbær þyrfti að dekka og ef allt gengur upp sem við erum að hugsa, þá er það eitthvað sem við gætum hugsanlega séð fram úr.“ Þingmenn og ráðherrar úr Suðurkjördæmi áttu á dögunum fund með forystumönnum Reykjanesbæjar þar sem farið var yfir þær

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Þetta skip þurfti að bíða í 12 klukkustundir eftir því að komast að hafnarbakkanum við Helguvík.

framkvæmdir sem þegar hafa átt sér stað og hvað vanti upp á í höfninni svo hún sé í stakk búin að sinna þeim inn- og útflutningi sem verður um höfnina þegar tvö kísilver hafa risið í Helguvík. „Það er fullur skilningur á þessu og mikill áhugi á að viðmót verði ekki lakara gagnvart okkur, en það hefur ekki sýnt sig á blaði ennþá,“ segir hafnarstjórinn. „Ég sá í Víkurfréttum á dögunum að fyrirhugaður væri fundur. Ég hef reyndar ekki verið boðaður á hann ennþá og veit ekki til þess að nokkur annar hafi verið boðaður á hann.“ Halldór segir að ef þessar stækkanir muni ekki eiga sér stað þá setji það miklar hömlur á atvinnuuppbyggingu á svæðinu. „Miðað við þá fjárfestingu sem liggur í þeirri uppbyggingu þá eru þetta bara smápeningar. Benda má á að í þjóðhagsspá síðastliðið haust var

uppbygging kísilvera í Helguvík forsenda fyrir bættum þjóðarhag i framtíðinni.“ Íbúar Reykjanesbæjar tóku líklega eftir því að malarskip landaði við Keflavíkurhöfn á dögunum. Það skip hefði átt að landa við höfnina við Helguvík ef umferð þar hefði ekki verið svo þung. „Við bara verðum að ná þessari uppbyggingu við hafnaraðstöðuna því annars sé ég ekki hvernig við eigum að geta þjónustað þá aðila sem eru að hasla sér völl á þessu svæði. Auk þess að ef að uppbyggingin á flugvallarsvæðinu verður eins og virðist stefna í þá þýðir það að allt það sem þarf að flytja inn vegna þeirrar starfsemi, þarf að fara í gegnum aðrar hafnir en okkar hafnir og slíkt myndi auk þess hafa í för með sér talsvert aukna umferð á Reykjanesbraut,“ segir hafnarstjórinn að endingu.


2

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 30. júní 2016

Skipta út gúmmíkurli við Akurskóla ■■Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum 9. júní síðastliðinn aukafjárveitingu til að endurnýja gúmmíkurl á sparkvelli við Akurskóla. Gert hafði verið ráð fyrir að fara í þessa framkvæmd en áætlanir stóðust ekki og því þurfti að sækja um viðbótarfjármagn. Það gúmmí sem sett verður á völlinn við Akurskóla er annarar tegundar en það sem fyrir er, sem er dekkjagúmmí. Nýja gúmmíið er grátt og oft kennt við þvottavélagúmmí því þannig gúmmí er notað í þéttihringi í þvottavélum, að sögn Guðlaugs H. Sigurjónssonar, sviðsstjóra Umhverfissviðs Reykjanesbæjar. Alþingi samþykkti fyrr á árinu þingsályktunartillögu um bann við notkun gúmmíkurls úr dekkjum á leik- og íþróttavöllum.

Hefja framleiðslu eftir mánuð ●●Byggingaframkvæmdum við kísilver að ljúka Verið er að leggja lokahönd á byggingu kísilvers United Silicon í Helguvík. Áætlað er að byggingframkvæmdum ljúki á morgun, föstudag. „Í júlí verður framleiðslubúnaðurinn settur upp og við munum hefja framleiðslu 30. júlí. Þetta hefur því verið hraður lokasprettur að undanförnu,“ segir Magnús Garðarsson, framkvæmdastjóri United Silicon. Verið er að ráða fólk til starfa hjá kísilverinu og segir Magnús það ganga vel. Þegar fyrsta áfanganum verður lokið munu starfsmennirnir vera 62. Einn ofn verður í byggingunni sem nú er verið að ljúka við. Samkvæmt áætlunum verður þremur eins byggingum bætt við á næsta áratug. Þá verður verksmiðjan sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Stækkun mun ráðast meðal annars af ástandi á kísilmarkaðnum. „Það kom smá lægð síðasta haust. Kísillinn hélt sér mjög lengi uppi miðað við járn, kopar og ál en fór

Magnús Jóhannesson tekur við umhverfisstyrk frá Samfélagssjóði Landsbankans. Með honum á myndinni eru dr. Guðrún Pétursdóttir, formaður dómnefndar og Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.

Brosbræður hlutu styrk frá Landsbankanum svo því miður í svolitla lægð. Þetta er eitthvað sem gerist á tveggja til þriggja ára fresti og ekkert sem ástæða er að örvænta yfir.“ Áætlað er að kostnaður við framkvæmdirnar sem nú er að ljúka séu um tólf milljarðar. Tafir á framkvæmdum við höfnina í Helguvík hafa verið í fréttum að undanförnu og er United Silicon með samning við Reykjaneshöfn um að hafnarkanturinn verði stækkaður svo að fyrirtækið hafi hluta af honum fyrir sig. Magnús segir að á meðan ekki séu fleiri fyrirtæki í Helguvík gangi hlutirnir upp, það væri þó mun betra fyrir kísilverið að hafa sinn eiginn hafnarkant. „Það myndi auðvelda starfið fyrir okkur. Til dæmis gætum

við verið með okkar eigin löndunarbúnað á höfninni en það er ekki hægt í dag. Við tökum á móti hráefninu í vörubílum og keyrum í hráefnisgeymsluna. Ef við hefðum okkar eigin hafnarkant gætum við flutt hráefnið á færiböndum sem væri hentugra.“

Brosbræður hlutu í vikunni 250.000 króna styrk frá Samfélagssjóði Landsbankans til að sýna heimildarmynd sína, Maðurinn sem minnkaði vistsporið sitt, í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Myndin fjallar um það hvernig Vesturlandabúar geta minnað vistspor sitt og jafnvel lifað innan sjálfbærnimarka. Bræðurnir á bak við myndina eru þeir Sigurður Eyberg og Magnús Jó-

hannessynir úr Keflavík. Heimildarmyndin um manninn sem minnkaði vistsporið sitt var frumsýnd í vor og var á dögunum sýnd í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Sautján verkefni hlutu umhverfisstyrki frá Samfélagssjóði Landsbankans að þessu sinni. Styrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á sviði umhverfismála og náttúruverndar.

Á myndinni er Júlía Rán Bjarnadóttir ásamt Bryndísi Jónu Magnúsdóttur, aðstoðarskólastjóra Heiðarskóla.

Ásdís Birta Hafþórsdóttir sigraði hjá 5. til 7. bekk með ljóðinu Von. Á myndinni er hún með Bryndísi Jónu Magnúsdóttur, aðstoðarskólastjóra Heiðarskóla.

Í verksmiðjunni verður kísill unninn úr kvarsi. Kvarsið er flutt hingað til lands frá Spáni og Frakklandi. Að sögn Magnúsar er kísillinn svo notaður í ýmsar vörur, svo sem tannkrem, sjampó, dekk, ýmis kíttiefni og fleira. Þá er kísill einnig notaður í sólarrafhlöður og segir Magnús það eina helstu ástæðu fyrir vexti markaðarins í samanburði við aðrar tegundir málma.

Þrír nemendur hlutu viðurkenningu í ljóðasamkeppni Hættu sér inn á heimili kríunnar ■■Ungir ofurhugar hættu sér inn á heimili kríanna við Fitjar í Njarðvík í vikunni. Strákarnir voru allir vopnaðir hjálmum á hausnum og læddust að hreiðrum kríanna sem sveimuðu yfir þeim í hundraðatali og gerðu einstaka loftárásir að strákunum. Ofurhugarnir stoppuðu stutt við, tóku eflaust nokkur snöpp á símann og hlupu svo eins og fætur toguðu aftur á öruggt svæði eins og sjá má á eftirfarandi myndum sem blaðamaður Víkurfrétta tók.

Ljóðasamkeppni Heiðarskóla var haldin í fyrsta sinn undir lok skólaársins. Allir nemendur skólans höfðu möguleika á að taka þátt en ljóðin voru flokkuð eftir aldursstigum. Form og umfjöllunarefni ljóðanna var frjálst. Ljóðin voru svo sett upp án nafna höfunda og völdu starfsmenn skólans sín uppáhalds ljóð og skiluðu inn atkvæðum.

Sigurvegarinn í 1. til 4. bekk var Júlía Rán Bjarnadóttir en hún orti ljóðið Ljóðið mitt, sigurvegarinn í 5. til 7. bekk var Ásdís Birta Hafþórsdóttir með ljóðið Von og Berglín Sólbrá Bergsdóttir átti sigurljóðið í 8. til 10. bekk sem bar titilinn Tímamót. Allar fengu þær bókaverðlaun á skólaslitunum þann 6. júní síðastliðinn.


markhönnun ehf

STÆRSTA GRILLHELGI ÁRSINS

! KOMA SVO

-26% TVÍRIFJUR KÓTILETTUR ÁÐUR: 2.698 KR/KG KR KG

1.997

-20% ÁFR AM

-20%

ÍSLA

ÁFRAM

ND

FERSKT LAMBA RIB-EYE ÁÐUR: 3.298 KR/KG KR KG

ÍSLAND

2.638

! KOMA SVO

-40%

KRYDDUÐ HELGARSTEIK ÁÐUR: 2.598 KR/KG

1.793 KR ÁFRA

! KOMA SVO

GRÍSAHRYGGJASNEIÐAR M. HVÍTLAUK ÁÐUR: 1.798 KR/KG KR KG

1.079

M ÍSL

A ND

ÁE M

478 KR

-31% ND

M ÍSLAND Á E

ÍSL A

HOLTA KJÚKLINGABORGARAR M. BRAUÐI - 2 STK ÁÐUR: 598 KR/PK

BRATWURSTE PYLSUR ÁÐUR: 636 KR/PK

585 KR

SKORA ÍSLAND SKORA

-20%

-20%

-20% GRILL KALKÚNASNEIÐAR M. HVÍTLAUKSPIPAR ÁÐUR: 2.998 KR/KG KR KG

2.398

KJÚKLINGALEGGIR ÁÐUR: 869 KR/KG KR KG

695

NAUTALUNDIR NÝSJÁLENSKAR ÁÐUR: 3.998 KR/KG

3.198

ÁFRAM ÍSLAND www.netto.is | Tilboðin gilda 30. júní – 3. júlí 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana. Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss

KR KG


4

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 30. júní 2016

ÞÚ LOGAR, GAKKTU AF STAÐ! ●●Ungur Grindvíkingur leggur áhættuleik fyrir sig „Sumt af því sem ég geri er hættulegt. kveikja í okkur og allt þar á milli,“ Það er ekkert grín þegar maður heldur segir Daníel. í sér andanum með lokuð augun og Daníel hefur þegar fengið tvö hlutheyrir kallað „þú logar, gakktu af verk. Annað var í tónlistarmyndstað!” segir Grindvíkingurinn Daníel bandi sem tekið var upp á VatnsleysuFreyr Elíasson sem hefur sett markið strönd og annað verður frumsýnt á hátt í áhættuleik. Hann segir jafnframt Menningarnótt í Reykjavík. Enn sem að sumt sem hann geri sé álíka hættu- komið er hefur Daníel ekki slasast við legt og að fara á rúntinn. „En ef maður áhættuleikinn en segir þó alltaf möguer ekki með hausinn á réttum stað, eða leika á því. Aðspurður um það hvort með réttan undirbúning, þá er alltaf fjölskyldan hafi áhyggjur af honum í áhættuleiknum hætta á slysum.“ segir hann þau Daníel byrjaði 17 alltaf hafa stutt sig ára að æfa parkour í gegnum allt sem með A.T.S. sem hann hefur tekið hefur aðstöðu hjá sér fyrir hendur. Gerplu. Það var „Stuðningur svo fyrir fjórum þeirra skiptir mig árum að hann fór rosalega mik lu til Þýskalands með máli. Hvort þau öðrum parkour h a f i á hy g g j u r, þjálfurum og hitti veit ég ekki, en mann sem skipuþað væri nú alveg leggur áhættuateðlilegt, myndi ég riði. Sá leyfði halda,“ segir hann þeim að prufa eitt í léttum dúr. og annað tengt áhættuleik og þá Ásamt því að kviknaði áhuginn stunda parkour og hjá Daníel. NýDaníel heillaðist af áhættuáhættuleik vinnur lega lauk Daníel leik þar sem hann var á ferðaDaníel á Keflasvo námskeiði hjá lagi með parkour þjálfurum. víkurflugvelli og European Stunt í SkemmtigarðS c h o ol í D an mörku en það er fyrirtæki sem sér- inum í Grafarvogi þess á milli, enda hæfir sig í áhættuatriðum og skipu- kveðst hann vera algjör vinnualki. lagningu á þeim. „Ég var þar í tvær Næstu skref hjá þessum unga ofurvikur þar sem við æfðum í tæplega huga verða svo að koma sér enn betur tólf klukkutíma á dag. Við fórum á framfæri. Myndband af Daníel við yfir alla flóruna, frá bardagaatriðum áhættuleik má sjá á vef Víkurfrétta, yfir í áhættuakstur, og þaðan í að láta vf.is.

ATVINNA

HREINGERNINGAR - RÆSTINGAR - AUKAVINNA Starfskraftur óskast í hreingerningar / ræstingar Okkur hjá Allt hreint vantar fólk til starfa bæði er um að ræða fullt starf og einnig vinna eftir samkomulagi. Mikil vinna framunda. Hæfniskröfur: Viðkomandi verður að vera amk 18 ára og vera með gild ökuréttindi Áhugasamir sendi tölvupóst á halldor@allthreint.is

WORK

STAFF NEEDED MUCH WORK AHEAD Requirements: Individuals must be at least 18 years old and have a valid driver’s licens Languages: Icelandic or good English We look for people for full time work (08:00 - 16:00 100%) and also part time If interested please send an e-mail to: halldor@allthreint.is

Á myndinni er Daníel búinn að klæða sig í tvöfalt lag af sams konar innanundir fatnaði og notaður er í kappakstri en það efni þolir hita vel. Fatnaðurinn hefur lagið í kæligeli í dágóðan tíma. Að sögn Daníels er ískalt að vera í fötunum og er markmiðið að lækka líkamshitann til að geta verið lengur í logunum. Ytra lagið er samfestingur eins og notaður er í kappakstri. Hann er smurður með kæligeli. Yfir það fór hann í venjulegan gallabuxur og jakka sem líka eru smurð með kæligelinu. Á þetta er settur eldfimur vökvi. „Áhættuleikarinn dregur djúpt andann, heldur honum inni, lokar augunum og gefur merki um að hann sé klár. Þá er kveikt í, hann látinn vita að hann logar, og þá fer hann af stað. Um leið og áhættuleikarinn finnur hitabreytingu leggst hann í jörðina og slökkvararnir stökkva inn og slökkva,“ segir Daníel.

SNJÖLL ÖPP - EIÐUR SNÆR UNNARSSON

Snappið tekur 70% af batteríinu Hinn 19 ára gamli Keflvíkingur Eiður Snær Unnarsson er duglegur að nota snjallsímann líkt og svo margir á hans aldri. Hann notar símann mikið til þess að hafa samskipti við vini sína og til þess að hlusta á tónlist eða pósta myndum. Eiður er Keflvíkingur í húð og hár en hann stundar nám við Verslunarskólann. Hann vinnur hjá Joe & Juice í sumar og með skóla.

Snapchat

Snapchat er það app sem ég nota langmest, 70% af batteríinu mínu fer í það að nota snap. Ég nota það bæði til þess að taka myndir af því sem ég er að gera og af því sem er að gerast í lífi mínu og svo líka til þess að spjalla við vinina heyra í þeim, hvort það sé eitthvað að gerast um kvöldið, snilldar app sem held ég flestir séu nú þegar með.

VSCO

VSCO er app sem ég nota til að pósta myndum á, það virkar mjög svipað og instagram. Maður setur myndir inn á netið fyrir fólk að sjá, nema enginn getur „like-að“ og þú sérð ekki hversu margir eru að „followa“ þig. Það er víst orðið „lykil“ atriði í unglingasamfélaginu nú til dags og gott að komast smá út úr því. Nota appið einnig til að þess að breyta myndunum mínum sem ég er með í símanum.

Spotify

Þetta app er sem sagt tónlistar app sem hefur aðgang að megninu af öllum lögum heimsins.

Messenger

Notes Það er appið sem er notað daglega hjá mér. Nota það reyndar líka í tölvunni mjög mikið og í vinnunni, nota það alltaf þegar ég er að keyra, hlusta voða litið á útvarpið. Ég tengi frekar símann og er með mína eigin tónlist.

Er einnig app sem kemur sterkt inn hjá mér. Messenger er í raun bara Facebook „chattið.“ Ég ræði við mjög mikið af fólki þar, bæði fyrir vinnuna og vini. Skemmtilegt app sem ég nota furðulega mikið, skrái næstum allar upplýsingarnar sem ég þarf að muna þangað, kiki svo alltaf annað slagið þarna inn og geri svo hlutina sem ég var búinn að skrá niður.


Prófaðu F í sólarhrin

ŠKODA Fabia býr yfir ótal kostum, en fögur orð og fyrirheit koma ekki í staðinn

reynslu. Því langar okkur að lána þér Fabiu í sólarhring. Komdu við hjá okkur e

á skoda@hekla.is og fáðu nýja ŠKODA Fabiu til reynslu í 24 tíma. Hlökkum til að

Verð frá aðeins

2.290.000 kr. HEKLA · Njarðarbraut 13 · Reykjanesbæ · Sími 590 5090 · heklarnb.is


6

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 30. júní 2016

FJÖR

Á SÓLSETURSHÁTÍÐINNI

Sólseturshátíðin var haldin í Garði í síðustu viku og fór vel fram. Veðrið setti örlítið strik í reikninginn á föstudagskvöldinu og var hverfagrilli því aflýst. Hápunktur hátíðarinnar var á laugardaginn en þá var dagskrá nánast frá klukkan 14:00 til miðnættis, með fjölskylduskemmtun og tónlistarveislu. Dagana á undan voru ýmsir skemmtilegir viðburðir, svo sem karla- og konukvöld í sundlauginni, golfmót, fróðleiksganga, heimatónleikar, strandblak, spinning, miðnæturmessa og fleira. Þetta var í 12. sinn sem Sólseturshátíðin var haldin í Garði. Lítið fór þó fyrir sólsetrinu þessa vikuna og er það í eitt af fáum skiptum sem það hendir á Sólseturshátíðinni.

Yfir hundrað gestir mættu á tónleika við Melbraut 6 í Garði á Sólseturshátíðinni. Þar búa Jónína Magnúsdóttir og Guðni Ingimundarson ásamt börnum sínum. Bæjarfulltrúar boðuðu í sameiningu til tónleikanna en tilgangurinn með þeim var að að safna pening fyrir dreng í 6. bekk í Gerðaskóla sem hefur greinst með hvítblæði. Að sögn Jónínu var ánægjulegt hversu margir mættu á tónleikana en rúmlega 170.000 krónur söfnuðust. Allir tónlistarmennirnir sem komu fram á tónleikunum eru úr Garði en það voru þau Kolfinna Jóna Baldursdóttir, Atli Reynir Baldursson, Íris Einarsdóttir, Íris Benediktsdóttir, Aðalheiður Lind Björnsdóttir, Víkingarnir, Vignir Bergmann og Sigurður Smári Hansson.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.


150kr Aðeins

stykkið

1.998 kr. kg

1.498 kr. 10 stk.

195

Kjarnafæði Lambakótilettur Í raspi, frosnar

Kjarnafæði Nautgripaborgarar 10x120 g, frosnir

Grand salat 200 g

1.498 kr. kg KS Lambalærissneiðar Frosnar

kr. 200 g

GOTT VERÐ Í BÓNUS

t

kjö a b m a l t k Íslens

1.298 kr. kg

2.598 kr. kg

Bónus Grísakótilettur Með beini, kryddaðar

Íslandslamb Lambakótilettur Kryddlegnar, ferskar

2.598 kr. kg

1.998 kr. kg

Íslandslamb Lambalærissneiðar Kryddlegnar, 1.flokkur, ferskar

Íslandslamb Lambalærissneiðar Kryddlegnar, blandaðar, ferskar

9x250 m rúllur

379 kr. 430 g

NÝBAKAÐ!

359 kr. 4 stk.

100 kr Verðlækkun

Bónus Skúffukaka 430 g

Bónus Kjallarabollur með osti, 4 stk.

NÝBAKAÐ!

259 kr. 4 stk.

198 kr. pk.

698

Bónus Kringlur 4 stk.

Euro Shopper Eldhúsrúllur 4 rúllur í pakka

Bónus Salernispappír 9 rúllur, 3 laga - Verð áður 798 kr.

kr. 9 rl.

Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 3. júlí eða meðan birgðir endast


8

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 30. júní 2016

Segja má að ég hafi orðið ástfangin af þaranum enda er þetta ein harðgerðasta lífvera jarðarinnar og einstaklega næringarrík

OFNÆMI VARÐ KVEIKJAN AÐ NÝSKÖPUN ●●Frumkvöðullinn Eydís Mary Jónsdóttir þróar ● krem úr þara í samstarfi við móður sína og frænda „Ég komst að því fyrir 12 árum að sonur minn er með ofnæmi fyrir parabenum, rotvarnarefnum í kremum. Eftir það fór ég að lesa utan snyrtivörur og sá að það voru paraben nánast í þeim öllum. Ég komst líka að því að flestar húðvörur innihalda lítið magn virkra efna, en þess í stað mikið magn af óvirkum fylliefnum ásamt ýmsum öðrum efnum sem geta verið skaðleg bæði heilsu okkar og umhverfinu,“ segir Eydís Mary Jónsdóttir, umhverfisfræðingur og frumkvöðull hjá nýsköpunarfyrirtækinu Zeto. Í mars síðastliðnum tók Eydís þátt í Frumkvöðlakeppninni Gullegginu með hugmynd sína um að framleiða lífvirkar húð-, hár- og sápuvörur úr kaldpressuðu þaraþykkni og lenti í þriðja sæti. Síðan þá hefur verkefnið hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði, Átaki til atvinnusköpunnar og Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka og er markmiðið að setja fyrstu vörurnar á markað næsta sumar. Kynntist þaranum í Sandgerði

Eydís ólst upp á Norðurlandi og Austfjörðum en flutti til Reykjanesbæjar árið 2001 eftir að hún kynntist eiginmanni sínum, Guðmundi Stefáni Gunnarssyni, sem sennilega er þekktastur sem júdófrumkvöðull hjá UMFN. Hún lauk námi í landafræði í Danmörku og flutti aftur til Íslands árið 2008 og hóf þá nám í umhverfisfræðum við Háskóla Íslands. Eftir útskrift fór hún að vinna hjá Náttúrustofu Suðvesturlands í Sandgerði við að kortleggja lífríki í fjörum Reykjanesskaga. Þar kynntist hún fyrst þara og eiginleikum hans. „Þegar var smástreymt var ekki hægt að fara niður í fjöru að kortleggja og þá var ég að kanna hvað hægt væri að gera við þær þörungategundir sem við vorum að kortleggja. Segja má að ég hafi orðið ástfangin af þaranum enda er þetta ein harðgerðasta lífvera jarðarinnar og einstaklega næringarrík. Ég komst að því að þari er mikils metinn í húðvöruiðnaðinum því að í honum er að finna mikið magn vítamína, steinefna, amínósýra, andoxunarefna og ýmissa annara lífvirkra efna sem er vísindalega sannað að eru græðandi, mýkjandi, bæta efnaskipti, hjálpa til við uppbyggingu kollagens, hægja á öldrun húðarinnar, koma í veg fyrir myndun öra, verja húðina gegn ljós-

öldrun, eru bólgueyðandi, hafa vírus-, bakteríu- og sveppahamlandi eiginleika og hægja á vexti krabbameinsfrumna. Þarinn er einstakt efni og hjálpar til við að byggja upp heilbrigt vistkerfi húðarinnar,“ segir hún og brosir.

Aukin eftirspurn með þaranum

Gu ð ný Fj ól a S i g urðardóttir, móðir Eydísar, hefur alltaf verið mikið náttúrubarn að sögn Eydísar. „Hún hefur alltaf haft mikinn áhuga á að nýta það sem náttúran gefur, eins og ber, sveppi og hinar ýmsu lækningajurtir. Svo þegar parabenofnæmi sonar míns uppgötvaðist byrjaði hún að búa til húð- og sápuvörur fyrir okkur án skaðlegra efna, úr úrvals náttúrulegum efnum og jurtum sem hún tíndi sjálf.“ Til að byrja með var þó enginn þari í kremunum. Það var svo fyrir mikla tilviljun í spjalli á milli ættingja í jólaboði að þarinn kom til sögunnar. „Bróðir mömmu, Steindór Runiberg Haraldsson, var að segja frá þörungaþykkni sem hann hafði verið að þróa sem bragðefni. Hann er kokkur og hefur lengi unnið að ýmis konar nýsköpun

og líftækni, meðal annars að þróa bragðefni.“ Þegar Eydís heyrði af þaraþykkninu í jólaboðinu varð hún strax áhugasöm og svo skemmtilega vildi til að Steindór var með fullan brúsa af því úti í bíl. „Við mamma fengum brúsann og bárum þaraþykknið á okkur næstu daga og fundum mikinn

mun á húðinni. Við prófuðum að taka allt vatn úr kremuppskriftunum og settum þaraþykknið í staðinn og útkoman varð alveg einstakt krem. Allt í einu fórum við að finna fyrir mikilli eftirspurn eftir bæði kremunum og sápunum og þá sérstaklega frá fólki með viðkvæma húð eða húðvandamál eins og til dæmis exem. Með tímanum hafa svo nýjar vörur verið þróaðar eftir þörfum. Við leggjum mikla áherslu á að velja vandlega öll innihaldsefni varanna. Þannig eru engin óvirk fylliefni í þeim og að sjálfsögðu engin paraben.“

Fótakremið var júgursmyrsl

Eydís nefnir sem dæmi einn ættingja með viðkvæman hársvörð sem fékk mikinn kláða vegna súlfata sem er að finna í flestum sjampóum. „Súlföt eru ódýr freyðiefni sem geta verið mjög ertandi fyrir húðina og er að finna í flestum sjampóum og ódýrum sápum. Nú erum við búin að vera að þróa súlfatlaust sjampó og hárnæringu úr þaraþykkninu.“ Eydís nefnir einnig kunningjakonu þeirra sem var með mikið kuldaexem á höndum og keypti sápu á bás Júdódeildar UMFN á Ljósanótt eitt árið. „Eftir að hafa notað sápuna varð húðin alveg heil. Þessi kona hefur notað sápuna núna í rúm fjögur ár og nær með henni að halda niðri exeminu.“ Stefnan er einnig að setja á markað fótakrem. Í upphafi var fótakremið þó þróað sem júgursmyrsl því að vinkona mömmu Eydísar sem framleiðir lífræna mjólk vildi ekki nota venjulegt júgursmyrsl á kýrnar sínar. Móðir Eydísar setti saman krem, meðal annars úr þara og minkaolíu og úr varð hið besta smyrsl fyrir kýrnar en einnig einstaklega gott fótakrem fyrir fólk. Eydís segir þau hafa ótalmörg svona dæmi og hafi virkni þaraþykknisins og varanna sannarlega sannað sig á undanförnum árum. „Það var aldrei ætlunin að fara að framleiða og selja húðvörur, en allt í einu höfðum við í höndunum þetta einstaka hráefni og vörur sem hafa virkilega verið að gera fólki gott og því má segja að við getum ekki annað en sett þær á markað. Eldhúsið

hennar mömmu annar ekki lengur eftirspurn.“ Nú í sumar fer þaraþykknið í efnagreiningu hjá Matís og er Eydís full eftirvæntingar að sjá útkomuna. Kremin verða svo blönduð og pökkuð hjá fyrirtækinu Pharmarctica á Grenivík og sápurnar hjá Sælusápum í Kelduhverfi. Eydís segir skemmtilegt að verkefnið teygji sig svo víða um landið enda þurfi ekki allt að gerast á Suðvesturhorninu. „Það er mjög gaman að taka þátt í líftækni á Íslandi í dag. Það eru svo mörg fyrirtæki að framleiða virkilega vandaðar og hreinar vörur. Þó fyrirtækin séu mörg hver í samkeppni, þá vinna þau líka saman að því að skapa gott orðspor fyrir Ísland og íslenskar vöru og styrkja þannig hvert annað.“

Ný tækni

Þarinn sem notaður er í þykknið er lífrænt vottaður og er unninn hjá Þörungavinnslunni á Reykhólum. Að sögn Eydísar er vinnsluaðferðin við að ná þaraþykkninu úr þaranum einstök og eftir því sem hún best veit ekki notuð annars staðar í heiminum. „Hefðbundið þaraekstrakt er unnið með hjálp ensíma eða sýru og basa en þá tapast ýmis lífvirk efni í vinnslunni. Steindór frændi er búinn að þróa aðferð sem byggir á nýrri tækni í vélbúnaði og vonumst við til þess að ná meira af lífvirkum efnum úr þaranum, auk þess sem aðferðin er afar umhverfisvæn.“

Stefna á útflutning

Núna er verið að vinna að hönnun á umbúðum og verður allur texti á þeim á ensku þar sem stefnan sé sett á útflutning sem fyrst. Eydís og félagar eru þegar í samstarfi við aðila í Japan, Bretlandi og Þýskalandi sem bíða spenntir eftir að vörurnar verði tilbúnar til markaðsetningar. Eydís segir fólk alltaf að verða meðvitaðra um skaðsemi ýmissa kemískra efna og að mikill vöxtur sé á sölu náttúrulegra húðvara. Næstu skref eru svo að undirbúa markaðsetningu varanna og vonast Eydís til þess að vörur Zeto verði komnar á markað næsta sumar. „Ég hef mikla trú á þaraþykkninu og þeim vörum sem við erum búin að þróa. Það sem ég þarf að gera núna er að vanda vel til verka og þá mun Zeto ganga vel.“


EM tilboð! 30% afsláttur af

MÚRBÚÐARVERÐI

meðan birgðir endast

Kailber KG-1503 gasgrill

Made by Lavor

3 x 3KW brennarar, grillflötur 2520 cm2, 9KW

CE/GS VOTTUN

30.730

10.493

verð áður kr. 43.900*

verð áður kr. 14.990*

Lavor One Plus 130 háþrýstidæla

30%

130 Max bar 420min Litrar Fylgihlutir: Burstar, sápubrúsi & Turbóstútur.

AFSLÁTT UR

20 l. d l o m r Gróðu

AFSLÁTT UR

630

K Tilboð: iðir fyrir 3 re poka, g

áður kr. 900

30%

1.183

áður kr. 1.690 einnig til 60 cm á kr. 1.327 Margar stærðir og gerðir með afslætti

Drive ZD90A-20L Ryk- og blautsuga 1400W, 20 lítrar rafmagns innstunga

Cibon #1630 Hellubursti framlengjanlegt skaft

1.187 áður kr. 1.695

30%

10.493

áður kr. 16.990

áður kr. 14.990

Landora tréolía 3 l.

1.883 áður kr. 2.690

AFSLÁTT UR

Portúgalskir leirpottar í úrvali Gæðavara 30% afsláttur

LLA-211 - BAR PRO álstigi/trappa 2x11 þrep 3,11-5,34 m

11.893

30%

AFSLÁTT UR

AFSLÁTT UR

Cibon Strákústur 45cm

AFSLÁTT UR

49a0upkirr 4

Leca blómapottamöl 10 l.

30%

30%

30%

Undirdiskar fáanlegir

AFSLÁTT UR

30%

AFSLÁTT UR

30%

AFSLÁTT UR

Drive Fjölnotatæki 300W

5.593 áður kr. 7.990

Reykjavík

Kletthálsi 7

Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16

Reykjanesbær

Fuglavík 18

Opið virka daga kl. 8-18

*þessi vara var með 20% afslætti frá fyrra verði, en nú með viðbótar EM 10 prósentustiga afslætti.

Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

Neytendur athugið! Múrbúðin selur allar vörur sínar á lágmarksverði fyrir alla, alltaf. Gerið verð- og gæðasamanburð!


10

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 30. júní 2016

SUMARFRÍIÐ

LAUS STÖRF ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ Verkamaður LEIKSKÓLINN TJARNARSEL Sérkennslustjóri LEIKSKÓLINN TJARNARSEL Leikskólakennari FJÁRMÁLASVIÐ Deildarstjóri launadeildar VELFERÐARSVIÐ Starf á heimili fatlaðs fólks Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi /laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.

VIÐBURÐIR HEIMSKONUR HITTAST/WOMEN OF THE WORLD MEET Heimskonur, a group of international women in Reykjanesbær, will meet at Ráðhúskaffi from 13:00 - 15:00 o´clock on Saturday the 2nd of July. New members welcome.

Magnað að gista í Ásbyrgi ●●Búin að fá tengdamömmubox lánað fyrir sumarfríið Anna Margrét Ólafsdóttir, verkefnisstjóri hjá Bókasafni Reykjanesbæjar og jógakennari, ætlar að ferðast um landið með fjölskyldunni í sumar. Draumasumarfríið væri að keyra í rólegheitum í kringum landið, á húsbíl. Hvernig verður sumarfríið hjá þér í ár? Sumarfríið í ár verður fyrsta heila sumarfríið okkar hjóna saman og erum við bara að verða nokkuð spennt að getað slakað á með börnunum. Við fengum lánað tengdamömmubox og getum því komið hundi, börnum, tjaldi og öðrum farangri í bílinn. Við ætlum að fara norður á Akureyri en þar á ég nokkrar góðar vinkonur sem gaman verður að hitta. Það er líka alltaf svo gaman að fara á Akureyri en ég bjó þar á háskólaárunum og þykir voðalega vænt um bæinn. Við ætlum líka að fara í sumarbústað og heimsækja fjölskylduna mína eitthvað en flestir eru á Selfossi og í Hveragerði. Einnig gefum við okkur tíma í fjallgöngur, jóga og mögulega eitthvað golf ef meirihluti fjölskyldunnar fær að ráða! Eftirminnilegasta fríið? Minnið mætti nú mögulega vera betra en ég nefni sumarfríið í fyrra.

Anna Margrét ásamt eiginmanni sínum Inga Þór Ingibergssyni og börnum þeirra, þeim Bergrúnu Írisi og Skarphéðni Óla. Á myndinni má líka sjá tíkina Mýru. Myndin var tekin í Lystigarðinum á Akureyri síðasta sumar.

Þá fórum við fjölskyldan með tjald norður í land og gistum meðal annars í Ásbyrgi. Það þótti mér vera magnað, alveg heiðskýr himinn, náttúrufegurðin engu lík og svo var svo gaman að ferðast aðeins um svæðið. Ég bara elska Ísland! Hvert væri draumasumarfríið? Draumasumarfríið er sennilega að hafa nægan tíma og fara umhverfis landið, helst á húsbíl. Ég hugsa að

LANDNÁMSDÝRAGARÐURINN OPINN

Verið velkomin

Landnámsdýragarðurinn við Víkingaheima er opinn alla daga kl. 10:00 - 17:00.

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00

Nánari upplýsingar um viðburði á vegum Reykjanesbæjar er að finna á vefnum www.reykjanesbaer.is.

Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

ATVINNA

Lotus Car Rental óskar eftir þjónustufulltrúa í fullt starf á starfstöð sína í Keflavík. LÝSING Á STARFI: - Afhenting og móttaka bifreiða - Þrif bifreiða - Önnur tilfallandi verkefni

HÆFNISKRÖFUR: - Framúrskarandi þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum - Góð enskukunnátta - Bílpróf - Jákvæðni og stundvísi

Áhugasamir geta haft samband við Alexander í gegnum netfangið alexander@lotuscarrental.is eða í síma 848-1250

ERTU MEÐ MEIRAPRÓF? Óska eftir bifreiðastjóra með meiraprófsréttindi. Upplýsingar í síma 820-2211, 899-2864.

það sé heppilegt. Svo hefur mig alltaf langað til Ítalíu og væri mjög til í að fara með fjölskyldunni minni þangað að borða góðan mat og njóta menningar beint í æð. Mesti draumurinn við sumarfrí, sem sérhver manneskja skapar sér sjálf, er að njóta! Teygja makindalega úr sér á hverjum morgni, fá sér kaffi í rúmið, lesa góðar bækur, hreyfa sig, fara í sund og njóta alls þess góða sem hver staður hefur upp á að bjóða.

Tæknifræðinemendur útskrifaðir við hátíðlega athöfn Kandídatar í tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis voru útskrifaðir síðasta föstudag. Námið heyrir undir Rafmagns- og tölvuverkfræðideild HÍ. Var þetta í fimmta sinn sem útskrifaðir voru nemendur í tæknifræði frá Keili til BSc-gráðu við Háskóla Íslands. Ellefu nemendur voru brautskráðir, sjö úr mekatróník hátæknifræði og fjórir úr orku- og umhverfistæknifræði. Brautskráningin fór fram við hátíðlega athöfn í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú og hafa nú í allt 63 nemendur útskrifast úr náminu frá upphafi. Sverrir Guðmundsson forstöðumaður tæknifræðinámsins flutti ávarp og afhenti prófskírteini ásamt Helga Þorbergssyni, dósent við Rafmagnsog tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands. Jóhannes Benediktsson, formaður tæknifræðingafélagsins, flutti ávarp og veitti gjafir fyrir vel unnin og áhugaverð verkefni. Viðurkenn-

ingar hlutu Helgi Valur Gunnarsson fyrir verkefnið „Pökkunarbúnaður fyrir bláskel“ og Jón Þór Guðbjörnsson fyrir verkefnið „Miðlægur orkustýribúnaður með gagnaflutning um raflagnir“. Þá hlaut Skarphéðinn Þór Gunnarsson viðurkenningu fyrir góðan námsárangur, með 8,3 í meðaleinkunn. Ellert Arason flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, flutti ræðu og stjórnaði athöfninni. Gjafir veittu Tæknifræðingafélag Íslands og HSOrka. Í tilkynningu frá Keili segir að næst verði tekið við nemendum í tæknifræðinám Háskóla Íslands og Keilis í janúar 2017. Um er að ræða hagnýtt nám sem hentar sérstaklega vel fyrir frumkvöðla og þá sem hafa áhuga á verklegri nálgun í námi og starfi.

Handunnin leðurbelti

Skóvinnustofa Sigga

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

NÝTT

Forvarnir með næringu

Opið alla daga fram á kvöld

STAPAFELL

Hafnargötu 50, Keflavík


HEFST Á FIMMTUDAG

- 30% - 40% - 50% - 20% - 30% - 40% - 50% - 40% - 50 20% 30% 40% 50% JÁLUÐ TILBOÐ - BRJÁLUÐ TILBOÐ - BRJÁ LUÐ TILBOÐ - BRJÁLUÐ TILBOÐ - BRJÁLU Ð TI

Húsasmiðjan Reykjanesbæ Skjólgirðingar og hattar 30% afsláttur Sumarblóm 20-40% afsláttur Bensín sláttuvélar 20% afsláttur Rafmagnssláttuvélar 25% afsláttur Garðverkfæri 25% afsláttur Hekkklippur 30% afsláttur Keðjusagir 30% afsláttur Panill og vatnsklæðning 20-30% afsláttur Háþrýstidælur 20% afsláttur Álstigar og tröppur 25% afsláttur Black & Decker rafmagnsverkfæri 30% afsláttur Hitachi rafmagnsverkfæri 20% afsláttur Úðarar og slönguhjól 30% afsláttur

Vatnsklæðning 20-30% afsláttur Skjólgirðingar 30% afsláttur Girðingastaurar 30% afsláttur Reiðhjól 30% afsláttur Garðhúsgögn 25% afsláttur Ferðahúsgögn 25% afsláttur Innihurðir 20-30% afsláttur Inni og útimálning 25% afsláttur Viðarvörn og pallaolía 20% afsláttur Heimilistæki valdar vörur á lækkuðu verði. Hreinlætis- og blöndunartæki valdar vörur á lækkuðu verði.

... og margt fleira!

- 50 - 30% - 20% - 30% - 40% - 50% - 20% - 30% - 40% - 50% - 40% 40% 50% JÁLUÐ TILBOÐ - BRJÁLUÐ TILBOÐ - BRJÁ LUÐ TILBOÐ - BRJÁLUÐ TILBOÐ - BRJÁLU Ð TI *Gildir ekki af tilboðum og „Lægsta lága verði Húsasmiðjunnar“. Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Vöruúrval getur verið misjafnt milli verslanna.

Byggjum á betra verði


12

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 30. júní 2016

SÆKJA Á

MATSÖLU

MIÐIN

●●Nýjir eigendur taka við Kantinum í Grindavík Grindvíkingurinn Kári Guðmundsson hafði verið með þann draum í maganum í áratug að opna matsölustað. Hann hafði gegnt ýmsum störfum og meðal annars starfað sem kokkur á sjó um nokkurt skeið. Hann hefur nú tekið við rekstrinum á Kantinum í Grindavík ásamt konu sinni Ölmu Guðmundsdóttur og Arnari syni sínum.

kokkur á sjó í nokkur ár og hefur alltaf unað sér vel við eldamennsku. Hann segist hafa mjög gaman af því að bjóða fólki heim og elda góðan mat. „Bróðir minn lærði meistarakokkinn og ég hef fylgst vel með honum. Ég er alveg búinn að vera með það í maganum síðustu tíu ár að opna veitingastað,“ segir Kári sem hefur síðustu ár starfað sem trésmiður.

Þau Kári og Alma höfðu enga reynslu af veitingarekstri áður en stukku á tækifærið þegar það gafst nú skömmu fyrir sjómannahelgina. Kári var

Fyrrum eigandinn, Björn Haraldsson, eða Bangsi eins og hann er kallaður, var ekki alveg á því að selja reksturinn frá sér enda hefur hann verið með

Kári Guðmundsson, Alma S. Guðmundsdóttir og Arnar Geir sonur Kára, reka núna Kantinn veitingastað í Grindavík.

verslun af einhverju tagi á staðnum síðustu 46 árin. Tækifærið kom þó fyrir hjónin skömmu fyrir þessa stóru helgi, sjómannahelgina. Þau þurftu þá að setjast niður að taka ákvörðun með hraði í samvinnu við fjölskylduna. Ákveðið var að stökkva beint í djúpu laugina.

Ferðamennirnir elska ferska fiskinn

Þau ákváðu að leggja áherslu á íslenskan fisk og lambakjöt þegar kom að matnum. Það hefur mælst vel fyrir hjá ferðamönnum sem mæta á staðinn

og hafa margir orð á því að djúpsteikti fiskurinn sé einn sá besti sem þeir hafa smakkað. Kári segist ætla að reyna að sinna heimafólki vel með því að bjóða upp á viðburði af ýmsu tagi á barnum. Allt frá árinu 1989 hefur verið bar á staðnum en þá tók til starfa Hafurbjörninn. „Allir Grindvíkingar muna eftir húsnæðinu sem djammstað. Hér á árum áður var alltaf troðfullt hverja helgi. Það er draumurinn að vekja upp þá gömlu stemningu.“ Það er mikil vinna að reka svona stað en þau hjónin eru ýmsu vön og kalla

ekki allt ömmu sína. „Þetta er þannig rekstur að það þarf að vera hægt að treysta á fjölskylduna því þetta er mjög bindandi. Frá því að við opnuðum þá er ég búinn að eiga heima hérna meira og minna,“ segir Kári og hlær. Kári segist hafa fengið jákvæð viðbrögð frá heimafólki og er hann fullur bjartsýni. Kári var með trillu á sínum tíma þar sem hann sótti sjóinn stíft. „Ég get bara lýst þessu þannig að maður er að sækja á miðin hérna. Maður veit svo ekkert hvað maður fiskar.“

REYNA AÐ LÁGMARKA ÓNÆÐI FRÁ FLUGUMFERÐ ●●Flugumferð yfir Njarðvík hefur verið tíðari en áður vegna framkvæmda við norður-suðurbraut Nokkrir íbúar Reykjanesbæjar hafa kvartað, bæði til bæjaryfirvalda og Isavia, vegna hávaða frá flugumferð við Keflavíkurflugvöll en vegna framkvæmda við norður-suður braut vallarins hafa vélar flogið tíðar yfir byggð í Njarðvík en áður. Brautin verður lokuð í allt sumar vegna malbikunarframkvæmda. Á meðan mun öll flugumferð fara um flugbrautina sem liggur austur-vestur. Flugvélar sem taka á loft í austur eða koma til lendingar úr austri fara yfir byggð í Njarðvík í meira mæli en þegar báðar brautirnar eru í notkun. Af því tilefni áttu Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjanesbæjar, fund með fulltrúum Isavia, þar sem þessi mál voru rædd. Niðurstaða fundarins var sú að reynt verður að lámarka ónæði vegna flugs yfir byggðir Reykjanesbæjar með

því að notast við flugtaksferla til að minnka hávaðamengun sem og að beina flugumferð sem mest út yfir Hvalsnes. Reynt verður að lágmarka ónæði vegna flugs, meðal annars með því að notast við flugtaksferla sem miða að því að hreyflum sé beitt þannig að þeir valdi sem minnstum hávaða. Í öðru lagi á að beina flugumferð sem mest um vestari enda flugbrautarinnar, sem liggur út af Hvalsnesi, þegar það er hægt en því tengjast margir aðrir þættir svo sem eldsneytisnotkun, flugtími og fleira. Einnig á að leggja sérstaka áherslu á notkun vestari enda brautarinnar á tímabilinu 23:00 til 07:00 þegar aðstæður leyfa. Einnig stendur til í haust að koma upp mælitækjum þar sem hægt verður, í gegnum heimasíðu Isavia, að nálgast lifandi hávaðamælingar í rauntíma.

ATVINNA

STARFSKRAFTUR ÓSKAST TIL AÐ RÆSTISTARFA Í HEILBRIGÐISSTOFNUN SUÐURNESJA Í REYKJANESBÆ Vinnutímar eru frá kl. 08:00 - 13:30 einnig er unnið aðra hvora helgi. Leitað er að konu 25 ára eða eldri. Íslenskukunnátta æskileg. Áhugasamir sendið tölvupóst á netfangið halldor@allthreint.is

Daníel, Axel og Gabríel hjá Sláttuvélagenginu DAG.

Nóg að gera hjá Sláttuvélagenginu ●●12 ára drengir með sinn eigin rekstur „Það er fullt að gera og alltaf nýir garðar að bætast við,“ segir Daníel Dagur Árnason, 12 ára en hann stofnaði á dögunum Sláttuvélagengið DAG ásamt vinum sínum, þeim Axel Gomez og Gabríel Mána Unnarssyni. Þeir voru allir að ljúka 7. bekk í vor. Drengirnir eru með sláttuvél, orf, hrífur og poka undir hey og fara á milli garða í Reykjanesbæ og slá. Það er misjafnt hversu mikið slátturinn kostar og fer eftir því hve stór garðurinn er. „Ef það er lítill garður og hundaskítur sem þarf að tína upp eru þetta 4.000 krónur,“ segja þeir en mikilvægt er að tína upp eftir hundana því stykkin þeirra geta farið illa með sláttuvélina. Vinnan við sláttinn er fyrsta vinnan þeirra en Daníel Dagur hafði aðstoðað pabba sinn sem er málari. Þeir eru of ungir til að fá vinnu hjá vinnuskólanum en segjast heldur ekki mjög spenntir fyrir því að reyta arfa. „Svo er líka miklu meira upp úr þessu að hafa,“ segja þeir, hæst ánægðir með sláttuvélastarfið. Nánari upplýsingar um Sláttuvélagengið má nálgast á Facebook-síðunni Garðsláttur hjá sláttuvélagenginu DAG.

Axel og Gabríel að raka í blíðunni á dögunum. VF-mynd/dagnyhulda


16 - 2 0 6 3 - H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A

LANGAR ÞIG AÐ L ÆRA A Ð S TJ Ó R N A F L U G U M F E R Ð ? I S AV I A H E F U R O P N A Ð F Y R I R U M S Ó K N I R U M N Á M Í F L U G U M F E R ÐA R S TJ Ó R N Í J A N ÚA R 2 0 1 7 Isavia annast rekstur íslensku flugleiðsöguþjónustunnar og er eini starfsvettvangur flugumferðarstjóra á Íslandi. Flugumferðarstjórar stýra flugumferð á flugvöllum á Íslandi og á íslenska flugstjórnarsvæðinu sem er 5,4 milljónir ferkílómetra að stærð og eitt það stærsta í heiminum. Isavia og forverar þess hafa jafnan annast alla þjálfun flugumferðarstjóra . Menntunar- og hæfniskröfur: • • • •

Viðkomandi þarf að vera a.m.k. 18 ára og hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi Góð tök á íslensku og ensku í tali og riti Viðkomandi þarf að vera góður í mannlegum samskiptum og sjálfstæður í vinnubrögðum Umsækjendur skulu geta staðist læknisskoðun skv. reglugerð um skírteini flugumferðarstjóra

Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og einkunnum úr námi. Hæfir umsækjendur verða boðaðir í inntökupróf. Sérstök athygli er vakin á því að nemar sem teknir verða inn í grunnnám í flugumferðarstjórn hjá Isavia í janúar 2017 munu ekki greiða skólagjöld. Þótt fullnægjandi árangur náist í námi er það ekki trygging fyrir starfi hjá Isavia að námi loknu. Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Wium, netfang: johann.wium@isavia.is.

Isavia rekur öflugt net flugvalla á Íslandi og flugleiðsöguþjónustu á einu stærsta flugstjórnarsvæði heims. Hjá Isavia og dótturfélögum vinnur samhentur hópur sem telur um 1.200 manns. Okkar markmið er að vera hluti af góðu ferðalagi allra þeirra sem fara um flugvelli okkar og flugstjórnarsvæði.

UMSÓKNARFRESTUR

UMSÓKNIR

24. JÚLÍ 2016

I S AV I A . I S/AT V I N N A


14

VÍKURFRÉTTIR

LÁTUM RÖDD OKKAR HEYRAST Framundan eru spennandi tímar og fólk er að kalla á eftir breytingum hér á landi, þjóðfélagsbreytingum. En hvernig breytingar eru það sem fólkið í landinu vill sjá? Til þess að finna út úr því þarf þjóðin að eiga samtal sín á milli, það er að segja samtal á milli ráðamanna þjóðarinnar og hins almenna borgara þessa lands. Þjóðin þarf líka að vilja, þora og hafa kjark til þess að láta rödd sína heyrast. Pírötur (konur innan Pírata) boðuðu til fundar hér í Reykjanesbæ og svo í Grindavík til þess að heyra hvað konur hér á svæðinu vildu tjá sig um, hvaða sýn þær hefðu á framtíðina. Um hvaða hugsjónir, breytingar og framtíðarsýn þær sjá fyrir sjálfar sig, börn sín og barnabörn. Þessi fundur var óháður því hvort þú tengdist eða tengdist ekki Pírötum eða öðrum samtökum eða félögum. Það var ekki margmennt á þessum fundum hvort sem nýliðnum forsetakosningum, fótbolta eða öðru er um að kenna, veit ég ekki. En það sem ég vil segja og tilgangurinn með

þessum pistli mínum er sá, að ef þér er boðið upp á samtal þar sem þú getur látið rödd þína, skoðanir og framtíðarsýn í ljós þá mættu og taktu þátt í samtalinu. Hvort það séu stjórnmálasamtök, kvenfélagið eða íþróttahreyfingar sem vilja hlusta á þína sýn hvað varðar framtíðina, þá mættu. Við erum öll mikilvæg, við höfum raddir og við höfum skoðanir. Við höfum framtíðarsýn fyrir okkur, börn okkar og barnabörn, um hvernig við viljum að þjóðfélagið okkar sé næstu árin. Hvort sem þú ert karl, kona, eldri borgari, öryrki eða ungmenni, þá tjáðu þig um þína sýn og hugsjónir. Við höfum kannski búið við þöggun of lengi og ekki þorað að tjá okkur en núna er þjóðin að kalla á breytingar svo látum rödd okkar og skoðanir hljóma. Því þannig virkar lýðræðið, þannig gerum við breytingar og þannig viljum við eiga samtal. Margrét Sigrún Þórólfsdóttir Pírati

Ástkær eiginmaður minn, fósturfaðir, afi, langafi og bróðir,

Sigurður Vilberg Egilsson,

fimmtudagur 30. júní 2016

SUMARGLEÐI Á GARÐASELI

Það var líf og fjör við leikskólann Garðasel í Keflavík í gær. Þar var haldin mikil sumarhátíð þar sem börnin fengu andlitsmálningu og grillaðar voru pulsur fyrir alla. Þá kom Polla Pönk og tók lagið og reif upp stemmninguna hjá börnum og fullorðnum fyrir landsleikinn á EM sem fór fram síðdegis í gær. Úrslit úr leiknum lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun. Vonandi eru þau í anda myndanna hér á síðunni. Vf-myndir: Hilmar Bragi

Hólagötu 1, Vogum,

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, föstudaginn 24. júní. Útförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju, föstudaginn 1. júlí. kl. 13:00. Selma Jónsdóttir, Elín Þóra Albertsdóttir, Björn Rúnar Albertsson, Sólveig Anna Einarsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna.

Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,

Páll S. Árnason,

Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ, lést þann 10 júní sl. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigurður Arnar Pálsson, Hulda Björk Pálsdóttir, Heiðar Örn Vilhjálmsson, barnabörn og systkyni hins látna.

Guðbjörg Jónsdóttir, Guðlaugur Jóhann Snorrason, Birgitta Jóna Fanndal,

KLASSÍSKT AÐ SOFNA OFAN Í BÓKINA Rithöfundurinn og framleiðandinn Kikka Kr. M. Sigurðardóttir er Lesandi vikunnar þessa vikuna. Bókin sem bjargaði henni úr einsemd var 100 ára einsemd eftir Gabriel García Márquez en henni finnst að allir ættu að lesa hana.

Ástkær móðir, tengdamóðir og amma,

Hildur (Día) Vilhjálmsdóttir, frá Brautarhóli Höfnum, 679 Land O Lakes Belleville,

lést laugardaginn 25. júní sl. í Bandaríkjunum. Vilhjálmur Nikulásson, Don Herwick, Rebecca Herwick, Jón Björn Vilhjálmsson,

LESANDI VIKUNNAR

Jóhanna Símonardóttir, Christine Herwick, Margret Elimarsdóttir.

Hvaða bók ertu að lesa núna? Bókin heitir Handan minninga og er eftir Sally Magnusson. Bókin fjallar um Alzheimer sjúkdóminn og hvernig það breytir öllu þegar náinn ættingi fær sjúkdóminn. Hver er þín eftirlætis bók? Þær eru nokkrar; Birtingur eftir Voltaire, Aulabandalagið eftir John Kenny Toole, Vinur minn prófessorinn eftir Lucilla Andrews. Það er ástarsaga sem til var heima hjá mér þegar ég var ung og var lesin aftur og aftur og aftur. Einnig verð ég að nefna Lastafans og lausar skrúfur eftir Diddu. Hver er eftirlætis höfundurinn þinn? Sigurlaug Didda Jónsdóttir Hvernig bækur lestu helst? Ljóðabækur og skáldsögur

Elskulegur eiginmaður og faðir,

Axel Þorberg Ingvarsson, Heiðarholti 7, Reykjanesbæ,

lést á Landspítalanum 24. júní 2016. Fyrir hönd aðstandanda, Elsa Björk Kjartansdóttir, Þorgeir Axelsson, Guðjón M. Axelsson og Soffía I. Axelsdóttir.

Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Það er bókin Kvennaklósettið eftir Marilyn French. Hún kveikti á femínistanum í mér. Einnig verð ég að nefna bókina Benjamín dúfa eftir Friðrik Erlingsson, ég grét svo mikið.

Hvaða bók ættu allir að lesa? Það eru tvær bækur sem mér dettur í hug. 100 ára einsemd eftir Gabriel García Márquez en sú bók bjargaði dvöl minni á Tálknafirði þegar ég vann þar í fiski 19 ára gömul. Vinkona mín sendi mér bókina og bjargaði einsemd minni, sem var auðvitað eins og 100 ár! Einnig verð ég að nefna bókina Salka Valka eftir Halldór Kiljan Laxness. Hvar finnst þér best að lesa? Upp í rúmi – að sofna ofan í bókina er klassískt! Hvaða bækur standa upp úr sem þú vilt mæla með? Frøken Smillas fornemmelse for sne eftir Peter Høeg, Skólaljóðin gömlu, ljóðasafn Þórarins Eldjárns og allt efni eftir Lindu Vilhjálms, Sigurlaugu Diddu Jónsdóttur og Elísabetu Jökuls. Við þökkum Kikku kærlega fyrir og bendum á heimasíðu bókasafnsins þar sem hægt er að skrá sig eða mæla með Lesanda vikunnar!

Í hverri viku í allt sumar verður valinn Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar. Lesandi vikunnar birtist í Víkurfréttum alla fimmtudaga í sumar. Í lok hvers mánaðar fær einhver einn heppinn lesandi lestrarverðlaun. Allir sem vilja taka þátt eða mæla með lesanda þurfa að skrá sig en það er hægt að gera í afgreiðslu Bókasafnsins eða á heimasíðu safnsins:sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn


fimmtudagur 30. júní 2016

15

VÍKURFRÉTTIR

ÍÞRÓTTIR

Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is

Sjötta árið í röð eru ÍRB Aldursflokkameistarar

Helgi fagnar hér marki sínu gegn erkifjendunum í Reyni fyrr í sumar. Mynd: Guðmundur Sigurðsson.

Sundlið ÍRB varð Aldursflokkameistari liða á AMÍ 2016 sjötta árið í röð um liðna helgi. ÍRB vann nokkuð öruggan sigur, náði að landa 576 stigum, en í öðru sæti varð Sundfélag Hafnarfjarðar með 418 stig. Aldursflokkaverðlaun einstaklinga eru veitt þeim keppendum sem ná bestum samanlögðum árangri í sínum stigahæstu greinum í samræmi við stigatöflu FINA í flokki pilta og stúlkna og í flokkum drengja og telpna. Sunneva Dögg Friðriksdóttir úr ÍRB, varð Aldursflokkameistari og stigahæsta stúlkan á mótinu í flokki stúlkna með samtals 1379 stig fyrir 400 og 100 metra skriðsund. Már Gunnarsson hjá ÍRB hlaut svo sérstakan styrk fyrir afrek sín á mótinu.

Úr bakverði í markamaskínu Helgi Þór Jónsson hefur verið sjóðheitur með Víðismönnum það sem af er sumri í 3. deildinni í fótbolta. Hann hefur skoraði nánast í hverjum leik og eru mörkin þegar orðin átta talsins í jafn mörgum leikjum. Viðismenn eru gjörsamlega eldheitir þessa stundina og hafa unnið alla fimm deildarleiki sina til þessa. Helgi er Víðismaður að upplagi en hefur þó leikið með 2. og 3. flokki hjá Keflavík síðustu ár. Hann leitaði aftur í heimahagana og varð leikmaður ársins hjá Víðisliðinu á síðasta tímabili. Það sem er merkilegt við það er að Helgi lék þá sem bakvörður hjá liðinu. Nú er hann orðinn framherji og kann heldur betur við sig á þeim slóðum. „Ég veit ekki hver er mín staða, ég hef verið út um allan völl,“ segir þessi 21 árs gamli leikmaður. Helgi segist vera búinn að finna sína stöðu frammi og þar kemur hann til með að leika framvegis að eigin sögn.

Fer í háskólaboltann í haust

Víðismaðurinn hyggst leggja land undir fót og hefja hákskólanám í Bandaríkjunm næsta haust. Helgi mun þar leika fótbolta og nema við Campbell University í Norður Karolínu fylki, en skólinn er í efstu deild háskólaboltans. „Þetta er mjög spennandi og markmiðið er að setja nokkur mörk í háskólaboltanum í vetur,“ segir markaskorarinn ungi sem þó nær líklega ekki að klára tímabilið með Víðismönnum. „Við stefnum klárlega að því að komast upp um deild. Það er gaman af því hvað það er mikið af heimamönnum í liðinu,“ bætir hann við. Víðismenn hafa farið gríðarlega vel af stað eins og áður segir og það er stemning í hópnum. „Þetta er hörku hópur. Það er samkeppni um allar stöður og menn eru því á tánum,“ segir Helgi.

FÓTBOLTASNILLINGUR VIKUNNAR Alexander Aron Smárason er fótboltasnillingur vikunnar

VERIÐ Í FÓTBOLTA FRÁ ÞVÍ AÐ HANN VAR TVEGGJA ÁRA Alexander Aron Smárason er 12 ára sóknarmaður hjá Keflavík. Hann hefur æft fótbolta allt frá því hann var tveggja ára. Hann stefnir hátt í fótboltanum og ætlar sér að verða atvinnumaður. Draumurinn væri þá líklega að spila fyrir Arsenal í enska boltanum, en það er uppáhaldsliðið. Aldur/félag? 12 ára / Keflavík. Hvað hefur þú æft fótbolta lengi? Frá tveggja ára aldri. Hvaða stöðu spilar þú? Sóknarmaður. Hvert er markmið þitt í fótbolta? Að verða atvinnumaður. Hversu oft æfir þú á viku? Fjórum sinnum í viku á sumrin en þrisvar á veturna auk þess að vera í liðleika æfingum og metabolic. Hver er þinn eftirlætis fótboltamaður/kona? Neymar/Gylfi Sigurðsson. Áttu þér einhverja fyrirmynd í boltanum? Gylfi Sigurðsson. Hefurðu farið á fótboltaleik erlendis? Já, nokkrum sinnum. Hversu oft getur þú haldið á lofti? 67 sinnum. Hvaða erlenda félag heldur þú upp á? Arsenal.

Tómas Ingi Oddsson fyrirliði Njarðv í k inga me ð bikarinn.

Alexander Freyr Sigvaldason og Jón Garðar Arnarsson í pressuliði og landsliði.

Njarðvíkingar sóttu bikar til Eyja ●●Flottir peyjar í 6. flokki í fótboltanum ■■Njarðvíkingar voru sigursælir á Orkumóti 6. flokks í fótbolta um helgina. Njarðvík sendi tvö lið til leiks en Njarðvíkurliði 1 tókst að vinna einn af þeim bikurum sem voru í boði á mótinu, svokallaðan Álfseyjarbikar. Sigurinn kom eftir mikla baráttu við FH í úrslitaleik og var það Tómas Ingi Oddsson fyrirliði liðsins sem tók við bikarnum í leikslok. Að venju fór fram úrvalsleikur milli landsliðsins og pressuliðs á föstudeginum og átti Njarðvík fulltrúa í báðum liðum. Alexander Freyr Sigvaldason spilaði með pressuliðinu og Jón Garðar Arnarsson var markvörður landsliðsins.


Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

Mundi ÁÁÁfram Íslaaaand! STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

twitter.com/vikurfrettir

instagram.com/vikurfrettir

Baka flatkökur í gömlu hafnarvigtinni ●●Vinsælar flatkökur hjá mæðgum í Vogum

Kettlingarnir dvelja nú í góðu yfirlæti og bíða eftir að flytja á ný framtíðarheimili.

Kettlingar skildir eftir í garðaúrgangi

Mæðgurnar Þóranna Þórarinsdóttir og Brynja Kristmannsdóttir reka saman Brælubakaríið í húsnæði gömlu hafnarvigtarinnar í Vogum. Þar baka þær flatkökur sem notið hafa mikilla vinsælda. Þóranna er búin að standa í bakstri í um þrjátíu ár og byrjaði heima og þá með annarri vinnu. Nýlega lét hún af störfum hjá Þorbirninum eftir 37 ára starf og ætlar núna að einbeita sér alfarið að bakstrinum. Brynja dóttir hennar er líka nýhætt í sinni vinnu vegna anna við baksturinn. Að sögn Þórönnu er eftirspurnin eftir flatkökunum mikil og alltaf að aukast. Þær hafa aldrei auglýst enda spyrst það út hversu góðar flatkökurnar eru. Flatkökurnar eru seldar

í verslun í flugstöðinni og í Góðum kosti í Njarðvík. Á næstunni má svo búast við flatkökunum í fleiri verslunum. Þá eru flatkökurnar einnig vinsælar hjá íþróttafélögum til að selja til fjáröflunar. Þóranna er úr Keflavík en hefur búið í Vogum í 45 ár og segist því vera orðin meiri Vogamaður en Keflvíkingur. Gamla hafnarvigtin er aðeins 20 fermetrar og sú stærð dugar þeim mæðgum enn sem komið er. Hver dagur byrjar á því að hnoða deigið í flatkökurnar. Þær hnoða allt deigið í höndum og notast aldrei við hrærivélar. „Þær eru líka betri kökurnar sem hnoðaðar eru í höndum en í vél,“ segir Þóranna að lokum, önnum kafinn við baksturinn.

●●Þörf á vitundarvakningu, segir kattavinur ●●Ábending til rannsóknar hjá MAST Sex kettlingar fundust síðasta laugardag innan um garðaúrgang við Fitjabakka í Reykjanesbæ. Þeir dvelja nú hjá félagi sem annast villiketti þar til ný heimili fyrir þá finnast. Kettlingarnir komu úr tveimur gotum. Þorbjörg Björgvinsdóttir er virkur sjálfboðaliði hjá Villiköttum í Reykjanesbæ og nágrenni og var haft samband þangað þegar kettlingarnir fundust. Hún segir ljóst að eigendur kettlinganna hafi losað sig við þá með þessum hætti. „Kettlingarnir höfðu verið auglýstir gefins á netinu fyrir mánuði síðan svo það var ekki flókið að finna eigendurna,“ segir hún en félagið hefur tilkynnt um málið til Matvælastofnunar. Þorbjörg segir með ólíkindum að fólk komi fram við gæludýr sín með þessum hætti. „Það er í rauninni verið að henda köttum eins og hverju öðru rusli. Það er brýn þörf á vitundarvakningu um tilfinningar dýra. Þegar gæludýr eru skilin eftir á víðavangi er mikil hætta á að þau verði veik,“ segir hún. Sektir geta orðið háar Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun er ekki heimilt að losa

berast ábendingar er réttmæti þeirra kannað og brugðist við þegar í ljós kemur að illa er farið með dýr eða þeim ekki sinnt eins og kveðið er á um samkvæmt lögum um velferð dýra og reglugerðum sem settar eru samkvæmt lögunum. Ábending um kettlingana sem fundust í Reykjanesbæ um síðustu helgi verður rannsökuð af stofnuninni.

sig við gæludýr út í náttúruna. Verði umráðamaður gæludýra uppvís af því og málið telst upplýst getur Matvælastofnun til dæmis beitt stjórnvaldssektum vegna brotsins. Slíkar sektir geta orðið háar en það fer eftir aðstæðum hverju sinni. Að sögn Konráðs Konráðssonar, héraðsdýralæknis Suðvesturumdæmis, er afar sjaldgæft að Matvælastofnun berist ábendingar um að fólk losi sig við dýr á þennan hátt. Þegar stofnuninni

Segir ógrynni villikatta á Suðurnesjum Félagið Villikettir í Reykjanesbæ og nágrenni á í góðu samstarfi við sams konar félög í Reykjavík og Hafnarfirði og við Kisukot. Þorbjörg segir ógrynni af villiköttum á Suðurnesjum en að félagsmenn hafi verið virkir og fækkað þeim. Á síðasta ári tóku félögin inn um 150 kettlinga. „Ég er satt best að segja búin að missa töluna á því hve margir þeir hafa verið á Suðurnesjum á þessu ári,“ segir hún. Sjálfboðaliðar gefa villiköttum á sjö stöðum á Suðurnesjum að borða daglega og hafa einnig unnið að því að gelda högna meðal þeirra til að hægja á fjölgun í hópunum. Reynt er að finna heimili fyrir yngstu kettina.

Þingmaður í klippingu til Keflavíkur

■■Þingmaðurinn hárprúði, Óttarr Proppé, gerði sér ferð til Suðurnesja á dögunum til að fara í klippingu á hárgreiðslustofunni Háráttu við Hafnargötu í Reykjanesbæ. Stofan var opnuð á dögunum og er í eigu Evu Bjarkar Sigfúsdóttur. Hún starfaði áður á stofu í miðbæ Reykjavíkur þar sem þingmaðurinn var fastagestur.

Mæðgurnar hafa aldrei auglýst flatkökurnar enda ekki verið þörf á því. Á myndinni má sjá Þórönnu Þórarinsdóttur við baksturinn.

TÍMABÓKANIR Í RANNSÓKN Á HSS

Fyrirkomulag rannsókna á HSS mun breytast frá og með 1. júlí næstkomandi þegar farið verður að bjóða upp á tímabókanir fyrir blóðsýnatökur á rannsóknastofu. Sýnatökur eftir bókunum hefjast svo 11. júlí. Bókað verður í tíma frá kl. 08:00 til 11:00. Þeir sem eiga að vera fastandi fyrir prufur bókast milli kl. 08:00 og 09:00 og fólk í blóðþynningarmælingu milli kl. 10:00 og 11:00. Móttaka annarra sýna verður eins og verið hefur. Móttökuritarar taka niður tímapantanir í síma 422-0500 á milli kl. 8:00 og 16:00 virka daga.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
26. tbl 2016 by Víkurfréttir ehf - Issuu