Víkurfréttir
ELLERT GRÉTARSSON
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
þekkir „undirheima“ Reykjanessins betur en flestir.
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001
Fékk hæstu einkunn í ML
bls. 6
bls. 8-9
Elías Ómarsson vekur mikla lukku í Noregi:
bls.14
vf.is
F IMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2 0 15 • 27. TÖ LUBL A Ð • 36. Á RGA NGU R
Svona mun ofninn líta út samsettur
Könnunin var gerð í samráði við forráðamenn sölustaða:
Skömmin hjá þeim sem selja börnum tóbak segir formaður Heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
Helgi Björn, yfirverkfræðingur hjá United Silicon við staðinn þar sem ofninn kemur.
Risaofn kominn til Helguvíkur - Sá fyrsti af fjórum. Stórt skref í byggingu kísilverksmiðju United Silicon.
FÍTON / SÍA
„Það eru stór tímamót að ofninn sé kominn til landsins. Það er búið að vinna í þessu í tæpt ár frá því skrifað var undir samninga. Við hófum svo framkvæmdir á svæðinu í september. Það er búið að teikna og hanna en menn hafa ekki almennilega séð hvernig afraksturinn verður fyrr en núna þegar búnaðurinn kemur,“ segir Helgi Björn, yfirverkfræðingur hjá United Silicon. Stórt skref var stigið í byggingu kísilverksmiðju þegar félagið tók á móti 32 megavatta ofni á mánudag fyrir fyrsta áfanga verksmiðjunnar. Ofninn, sem er frá Tenova Pyromet, mun framleiða um 21.500 tonn af kísli á ári en
einföld reiknivél á ebox.is
framleiðsla mun hefjast á vormánuðum á næsta ári. Kísilverið verður 36 metrar á hæð og mun mest sjást í lofthreinsibúnaðinn, sem verður um 18 metrar. Strax verður hafist handa við að setja ofninn saman á ný, en hann var settur saman á Ítalíu í maí til prufu. Von er á næstu sendingu með meiri framleiðslubúnaði strax í næsta mánuði. Vinnu á lóð félagsins miðar vel að sögn Helga Björns, yfirverkfræðings hjá United Silicon. IAV sér um byggingu ofnhús auk annara bygginga fyrir United Silicon. „Þessi ofn er fyrsti áfanginn í fjögurra ofna verksmiðju. Hönnun lóðar og
verksmiðjunnar í heild sinni hefur alltaf miðað við að hér gæti staðið fjögurra ofna verksmiðja þegar kísilmarkaður og raforkuframboð gæfi tilefni til,” segir Helgi Björn. Gildandi starfsleyfi United Silicon miðast við fyrir fjögurra ofna verksmiðju með ársframleiðslu upp á 100.000 tonn. Gildandi starfsleyfi United Silicon miðast við fyrir fjögurra ofna verksmiðju með ársframleiðslu upp á 100.000 tonn. United Silicon er íslenskt félag í meirihlutaeigu Íslendinga og meðal fjárfesta eru samtals 24 íslenskir, hollenskir og danskir einstaklingar ásamt 8 íslenskum lífeyrissjóðum.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
XX„Þetta eru skelfilegar niðurstöður en erfitt að meta þetta í raun. Við höfum t.d. ekki heimild til að gera slíkar kannanir eins og vitnað er í. Þarna er farið inn í verslun gagngert í þeim tilgangi að fá afgreiðslumann til að afgreiða tóbak til yngri en 18 ára án þess að sá hinn sami sé neytandi. Ekki veit ég hvernig þau bera sig að þegar þau biðja um tóbakið eða hvernig þessi hópur er samsettur sem var í þessu. En það er alltaf slæmt þegar afgreiðslufólk fellur í þá gryfju að áætla aldurinn frekar en að spyrja um skilríki. Það er jú erfitt að sanna aldur ungmenna á þessu reiki öðruvísi en að sjá skilríki. Auk þess sem brot á reglum og auðveldara aðgengi gæti ýtt undir neyslu þeirra á tóbaki,“ segir Þórður Karlsson, formaður Heilbrigðisnefndar Suðurnesja, um niðurstöður könnunar Samsuð á sölu á tóbaki til ungmenna yngri en 18 ára. Um þriðjungur eða 33% verslananna sem voru í úrtakinu, 8 af 24, seldu krökkunum sígarettur og 37% verslana, 9 af 24, seldu þeim munntóbak. Samkvæmt reglugerð um smásölu tóbaks fer heilbrigðisnefnd hvers landsvæðis með leyfisveitingar og eftirlit á smásölu tóbaks. Ýmsar ástæður gætu legið að baki Þórður segir skýringar á sölu tóbaks til ungmenna geta verið ýmist vegna álags á starfsfólk, kunningsskapar, kunnáttuleysis eða agaleysis sem fellst í því að spyrja ekki um persónuskilríki. „Einnig gæti það verið ungur aldur og reynsluleysi afgreiðslumanns. Og svo þarf þetta ekki endilega að vera einhver ein ástæða, sjálfsagt misjafnt milli verslana, fer eftir stjórnun og aga.“ Heilbrigðisnefnd Suðurnesja mun að sögn Þórðar halda eftirliti áfram eftir sem áður. „Við styðjumst við reglugerð við leyfisveitingar og þarf að uppfylla þau ákvæði sem þar eru til að leyfi sé veitt. Við ræddum niðurstöður síðustu könnunar á fundi í október 2014 og niðurstaðan þá var að halda áfram að minna söluaðila á lagaskyldur sínar. Við höfum engin önnur vopn í höndunum enda fáum við ekki upplýsingar úr könnuninni um hverjir það eru sem brjóta af sér.“ Forráðamenn sölustaða líti í eigin barn Þar sem könnunin var gerð í samráði við forráðamenn sölustaða þá sýnist Þórði skömmin vera hjá þeim sem selja tóbak til yngri en 18 ára. Væntanlega hafi allir sem samþykktu að taka þátt talið þetta vera í lagi hjá sér. „Það er nauðsynlegt að forráðamenn sölustaða líti í eigin barm og geri það rétta í stöðunni eins og t.d. að hafa meiri aga á því hvernig afgreiðslu er háttað og veita afgreiðslufólki upplýsingar varðandi verklag og ábyrgð gagnvart þeim reglum sem gilda um sölu tóbaks. Það ætti að gera strax við ráðningu og reglulega þar á eftir. Eftir því sem mér skilst þá er þetta svipuð útkoma og í síðustu könnun. Það væri fróðlegt að sjá upplýsingar um samanburð frá Samsuð við síðustu könnun, t.d. hvort þetta eru sömu aðilar sem standa sig eða eru með ítrekuð brot. Ég bara trúi því ekki að þeir sem hafa verið brotlegir í þessum könnunum séu svo metnaðarlausir að taka sig ekki á,“ segir Þórður.
2
fimmtudagur 9. júlí 2015 • VÍKURFRÉTTIR
HOLTASKÓLI
VANTAR KENNARA Á YNGSTA STIG Holtaskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stig til starfa næsta skóaár. Umsóknarfrestur er til 20. júlí nk. Nánari upplýsingar veita Eðvarð Þór Eðvarðsson skólastjóri í síma 842-5640 og Helga Hildur Snorradóttir aðstoðarskólastjóri í síma 848-1268. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netföngin edvard.t.edvardsson@holtaskoli.is og helga.h.snorradottir@holtaskoli.is. Sækja skal um starfið á www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig er að finna upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur.
TALMEINAFRÆÐINGUR ÓSKAST Staða talmeinafræðings er laus til umsóknar á fræðslusviði Reykjanesbæjar. Um er að ræða 60% stöðu og verður ráðið í stöðuna frá og með næsta skólaári. Talmeinafræðingur mun starfa í teymi fagfólks á fræðslusviði sem sinnir margvíslegri sérfræðiþjónustu við nemendur í leik- og grunnskólum. Umsóknarfrestur um starfið er til og með 20. júlí nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg B. Hilmarsdóttir leikskólafulltrúi Fræðslusviðs Reykjanesbæjar í síma 616-9966 eða netfangið ingibjorg.hilmarsdottir@reykjanesbaer.is. Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig er að finna upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur og meginverkefni.
ER NÁGRANNI ÞINN AÐ GERA GÓÐA HLUTI? SEGÐU OKKUR FRÁ ÞVÍ!
Umhverfissvið mun veita umhverfisviðurkenningar í sumarlok. Óskað er eftir ábendingum frá íbúum bæjarins um fallega garða, fallega endurbyggingu á gömlum húsum og lóðum hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Hægt er að senda ábendingar á netfangið berglind.asgeirsdottir@reykjanesbaer.is eða hringja í Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar í síma 420-3200, milli kl. 08:00 og 16:00.
Hljómahöll
SALA Á TÓNLEIKA VALDIMARS HAFIN Hljómsveitin Valdimar kemur fram í Stapa þann 30. desember. Miðasala er hafin á www.hljomaholl.is
SUMARSÝNINGAR DUUS SAFNAHÚSA Huldufley. Skipa- og bátamyndir Kjarvals.
Klaustursaumur og filmuprjón. Textíll í höndum kvenna. Konur í sögu bæjarins. Brot úr sagnaþáttum Mörtu Valgerðar Jónsdóttur. Sýningarnar standa til 23. ágúst. Duus safnahús er opin alla daga kl. 12:00 – 17:00 og er aðgangur ókeypis.
-fréttir
pósturu vf@vf.is
Tíu hervélar í helgarstoppi í Keflavík T
íu bandarískar her vélar voru í helgarstoppi á Keflavíkurflugvelli. Um var að ræða sjö A-10C Thunderbolt II árásarvélar sem oft eru kallaðar „Warthog“. Einnig voru tvær Lockheed TriStar og ein Boeing C-17 Globe-
master III flutningavél. Þegar um herflugvélar er að ræða er erfitt að nálgast upplýsingar um áfangastaði og á hvaða ferðalagi vélarnar eru eða hversu stór hópur fylgdi vélunum.
A-10C Thunderbolt II árásarvélarnar hafa síðustu misseri verið notaðar í baráttunni gegn ISIS og því má leiða líkur að því að annað hvort eru þessar vélar eða koma úr eða fara í verkefni tengd baráttunni gegn ISIS.
Ríkisfáninn við lögreglustöðina við Hringbraut í Reykjanesbæ vekur athygli:
„Einfaldlega góður siður“ segir lögreglustjóri „ Ákvörðunin var tekin vegna þess að það er einfaldlega góður siður að sýna bæði ríkisstofnuninni virðingu og fánanum. Ég er þeirrar prívat skoðunar að það mætti nota íslenska fánann meira en gert er. Notkunin virðist oftast fylgja fánadögum og svo hugsanlega persónulegum hátíðisdögum þeirra sem eiga flagg og fánastöng,“ segir lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Ólafur Helgi Kjartansson, en vakið hefur athygli að ríkisfáninn blaktir þar við hún á hverjum degi. Ætlunin er að íbúar Reykjanesbæjar og aðrir sem þar fara um sjái fánann við hún á hverjum degi við lögreglustöðina við Hringbraut. Ólafur Helgi segir að þau viðbrögð sem lögreglan hefur fengið hafi verið jákvæð. „Fólk spyr dálítið um þetta. Fyrsti dagurinn sem við flögguðum var þegar lögreglu-
maðurinn Sigvaldi Arnar Lárusson hóf göngu sína til Hofsóss. Það tengdist því reyndar ekki en var skemmtileg tilviljun.“ Aðallega hafi verið spurt hvers vegna verið sé að flagga tjúgufánanum. „Hann er náttúrulega ríkisfáni og þetta er ríkisstofnun. Það er enginn vafi á að hann á vel við á þessum stað,“ segir lögreglustjórinn að lokum.
Andlát: Gunnar Sveinsson
G
unnar Sveinsson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri í Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum, Reykjanesbæ, laugardaginn 4. júlí sl. Hann lætur eftir sig þrjú uppkomin börn, auk tengdabarna og afabarna. Gunnar lauk prófi frá Samvinnuskólanum árið 1942 og nam við Vår Gård og Brödrena Påhlmans Handelsinstitut í Stokkhólmi 1945 - 1946. Hann stundaði verslunarstörf á Patreksfirði og Akranesi 1942 til 1946 þegar hann var ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags Berufjarðar á Djúpavogi sem hann gegndi til 1948. Gunnar var ráðinn kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Suðurnesja árið 1949 og starfaði þar samfleytt þar til hann lét af störfum fyrir aldurssakir árið 1988. Hann var jafnframt stjórnarformaður Hraðfrystihúss Keflavíkur í 30 ár. Gunnar sat í stjórn Sambands íslenskra samvinnufélaga í 8 ár og sat í ýmsum stjórnum og nefndum á vegum kaupfélagsins og Sambandsins s.s. Lindar hf., Nýju teiknistofunnar hf. og Samskipa hf.
Gunnar tók mikinn þátt í margvíslegum félagsstörfum. Hann sat m.a. í stjórnum Ungmennafélags Keflavíkur, þar sem hann var formaður um tíma og Ungmennafélags Íslands. Þá átti hann sæti í Íþróttanefnd ríkisins. Gunnar sat í Skólanefnd Keflavíkur, í undirbúningsnefnd að stofnun Fjölbrautarskóla Suðurnesja og var síðan formaður skólanefndar FS í 11 ár. Hann átti sæti í sögunefnd Keflavíkur, sóknarnefnd Keflavíkurkirkju, auk setu á kirkjuþingi frá 1998 – 2001. Gunnar var félagi í Rótaryklúbbi Keflavíkur frá 1953, í Málfundafélaginu Faxa í yfir 50 ár og í stjórn Vestfirðingafélagsins á Suðurnesjum í yfir 40 ár auk ýmissa annara félagstarfa. Gunnar starfaði mikið fyrir Framsóknarflokkinn í 60 ár og var varaþingmaður á árunum 1974 – 1978 og tók nokkrum sinnum sæti á Alþingi. Útför Gunnars fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 13. júlí kl. 15.00.
Stal ellefu pökkum af kjúklingabringum XXLögreglumenn á Suðurnesjum handsömuðu síðdegis í fyrradag karlmann á fertugsaldri sem var á sprettinum eftir að hafa stolið 11 pakkningum af kjúklingabringum úr Bónus. Bringunum, að verðmæti rúmlega 23 þúsund krónur, hafði maðurinn troðið í bakpoka sem hann var með og hljóp svo út úr versluninni. Tveir starfsmenn Bónuss hlupu á eftir honum austur Reykjanesbraut en komust ekki í návígi við hann því þá kastaði hann til þeirra grjóti. Maðurinn henti bakpokanum frá sér á hlaupunum þegar hann varð eftirfararinnar var. Hann var handtekinn og færður til skýrslutöku á lögreglustöð og sleppt að því búnu.
16 óku of hratt í vikunni XXSextán ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í sl. viku. Sá sem hraðast ók mældist á 147 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Ökumaður var ekki með ökuskírteini sitt meðferðis. Ökumannsins bíður 130.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Þá var nokkuð um að ökumenn sinntu ekki stöðvunarskyldu eða töluðu í síma án handfrjáls búnaðar. Lögregla bendir ökumönnum á að halda bensínfætinum hæfilega þungum og virða aðrar umferðarreglur.
Fyrirmyndarökumenn á ATP hátíðinni XXLögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tugi bifreiða undir lok sl. viku á Ásbrú, þar sem ATP – tónlistarhátíðin fór fram. Um var að ræða eftirlit með ölvunarakstri og ökuréttindum. Reyndist hver einasti ökumaður með allt sitt á hreinu. Hátíðina sóttu mörg þúsund gestir og lét fólk vel af veru sinni þar.
RÝMINGAR BLÓMAVAL SALA REYKJANESBÆ
ALLAR VÖRUR
50% AFSLÁTTUR!
Markhönnun ehf
Kræsingar & kostakjör
! ð i l l i r
g á ott
g
-30%
NAUtA RIB-EYE
FERsKt, LítIL stK.
2.099 ÁÐUR 2.998 KR/KG
LAmBApRImE
-25% 2.999 FERsKt
LAmBA KóRóNA
-20%
FRosIÐ
2.999
KINDAFILE
-30% 2.960 KRYDDAÐ
ÁÐUR 3.998 KR/KG
ÁÐUR 3.749 KR/KG
ÁÐUR 4.228 KR/KG
HVítLAUKsBRAUÐ
FRANsKAR KARt.
pEcAN stYKKI
-25%
-25%
x-tRA, 2stK
179
-25%
x-tRA, 1 KG. oFN
299
-30%
BAKE-oFF
139
ÁÐUR 238 KR/pK
ÁÐUR 399 KR/pK
ÁÐUR 199 KR/stK
BLÁBERjAsAFI 1L
AppELsíN
pEpsI/pEpsI mAx
379
89
89
ÁÐUR 399 KR/stK
ÁÐUR 119 KR/stK
ÁÐUR 119 KR/stK
BERRY compANY
0,5L GosDós
0,5L GosDós
Tilboðin gilda 9. júlí – 12. júlí 2015 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
tANDoRI NAANBRAUÐ NIcE’NEAsY, 2 tEG
449 ÁÐUR 499 KR/stK
í t t ný ! ó t net
INDVERsKIR RéttIR NIcE’NEAsY, 4 tEG
479 ÁÐUR 549 KR/stK
RAUÐspREttUFLÖK
KjúKLINGABRINGA
KjúKL.BRINGUR
966
1.883
1.420
ÁÐUR 1.098 KR/KG
ÁÐUR 2.384 KR/KG
ÁÐUR 1.798 KR/KG
óDÝRt
G
í AppELsíNUmARIN.
DANpo, 900 GR
jARÐARBER
-25%
ANANAs
-50%
GoLD DEL moNtE
FERsK, 250 GR
359 ÁÐUR 479 KR/pK
195
-20%
ÁÐUR 398 KR/KG
K
FERsKjUR pLómUR EÐA NEKtARíNUR AsKjA,500 GR
279
ÁÐUR 349 KR/pK
LúxUs íspINNAR
mARs 4 í pK. sNAcKsIzE
NABIsco 66 GR
479
298
99
KR/pK
ÁÐUR 329 KR/pK
ÁÐUR 129 KR/pK
3 tEG, 4 í pAKKA
www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Búðakór· Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |
oREo KEx
6
fimmtudagur 9. júlí 2015 • VÍKURFRÉTTIR RITSTJÓRNARPISTILL PÁLL KETILSSON
vf.is
Hvar er tjaldsvæðið? ÚTGEFANDI: AFGREIÐSLA OG RITSTJÓRN: RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRÉTTASTJÓRI: BLAÐAMENN:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Olga Björt Þórðardóttir, olgabjort@vf.is Sigurður Friðrik Gunnarsson, siddi@vf.is AUGLÝSINGASTJÓRI: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is UMBROT OG HÖNNUN: Víkurfréttir ehf. Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
AFGREIÐSLA: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is PRENTVINNSLA: Landsprent UPPLAG: 9000 eintök. DREIFING: Íslandspóstur DAGLEG STAFRÆN ÚTGÁFA: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
FISKELDI Stofnfiskur hf. óskar eftir ráða fiskeldisfræðing og/eða starfskraft í fiskeldisstöð í Höfnum.
Ferðamannasumarið 2015 er í hámarki og veðurguðirnir hafa verið í góðu stuði síðustu vikurnar og þegar gert betur en þeir gerðu allt sumarið í fyrra, alla vega hér suðvestanlands. Nú er um að gera njóta blíðunnar
og frísins. Við Suðurnesjamenn þurfum ekki alltaf að leita langt yfir skammt því margar ferðamannaperlur eru á Reykjanesi. Garðskaginn er t.d. einn af þessum stöðum og hann naut sín vel á sólseturshátíð í Garðinum um þarsíðustu helgi. Garðskaginn er alltaf að verða vinsælli og vinsælli ferðamannastaður og þar hefur þó nokkur uppbygging átt sér stað varðandi hinn sístækkandi ferðamannaiðnað. Garðskagavitinn hefur alltaf sitt aðdráttarafl sem og fjaran þar í kring. Þá hefur verið byggð upp glæsileg veitingaaðstaða á svæðinu.
Garðurinn hefur einnig skapað sér ákveðna sérstöðu með því að rukka ekki fyrir aðgang að tjaldsvæði bæjarins á Garðskaganum,“ sagði Einar Jón Pálsson, forseti bæjarstjórnar Garðs í viðtali við Víkurfréttir. Það er gott og vel og hljóðið í ferðaþjónustunni á Suðurnesjum er betra en nokkru sinni fyrr. Nokkuð ljóst er þó að enn vantar talsvert upp á samvinnu milli aðila. Vonandi verður bætt úr því. Varðandi aðstöðu fyrir ferðamenn hefur verið kvartað sáran yfir því að það vanti tjaldsvæði í stærsta bæjarfélaginu á Suðurnesjum, bítlabænum Reykjanesbæ. Sést hefur til ferðamanna tjalda hér og þar um bæinn og þá hafa verslunaraðilar í bænum verið spurðir hvað tjaldsvæðið í ósköpunum sé? Það er eiginlega með ólíkindum að það sé ekki búið að græja þetta mál miðað við allar þær framkvæmdir sem farið var í á síðustu árum. En það hlýtur að fara að koma. Varla getur svona stórt bæjarfélagið verið án tjaldsvæðis?
Fékk hæstu einkunn í ML og stefnir í tölvunarfræði, sönglist og leiklist.
Í boði er spennandi starf við klak og eldi á hrognkelsum hjá fyrirtæki sem hefur á að skipa metnaðarfullt og samhent starfsfólk. Æskilegt er að viðkomandi búi á Suðurnesjum. Skrifleg umsókn ásamt ferilskrá skulu berast á netfangið solvi@stofnfiskur.is fyrir 25. júlí 2015.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
Guðlaugar Ágústu Þorkelsdóttur til heimilis að Æsuborgum 14 Reykjavík (áður Kirkjuvegi 27 Keflavík)
Hafsteinn Auðunn Hafsteinsson, Þorkell Þórður Pálsson, Guðmundur Sigurvinsson, Agnar B Þorkelsson, Halldór R Þorkelsson, Aðalsteinn Þorkelsson, Jón Á Þorkelsson, Hansborg Þorkelsdóttir Annel J Þorkelsson, Steinunn Þorkelsdóttir Björg Þorkelsdóttir
Dagný Magnúsdóttir, Sólveig K Andrésdóttir, Ólöf Sigurvinsdóttir, Edda Bergmannsdóttir, Bjarni Á Sigurðsson, Dóra F Gunnarsdóttir, Jón P Baldursson, Björg E Ægisdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Sveinsson,
fyrrverandi kaupfélagsstjóri í Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum Reykjanesbæ, laugardaginn 4. júlí sl. Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju, mánudaginn 13. júlí kl. 15.00. Ragnheiður Gunnarsdóttir, Sigurbjörn Gunnarsson, Gísli B. Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Ægir Magnússon, Jenný S. Gunnarsdóttir,
Meiri söknuður eftir heimavistina
Keflvíkingurinn Andrea Lind Hannah hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni við hátíðarlega athöfn útskriftarnema fyrr í sumar. Hún útskrifaðist af félagsfræðabraut með einkunnina 8,36. Hún vildi prófa ML m.a. heimavistarlífsins og þannig hafi hún kynnst fólkinu nánar en ella. Stefnan er tekin á tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík haustið 2016 en í sumar starfar hún í verslun afa síns, Georgs V. Hannah. „Ég vildi prófa eitthvað nýtt og þ.á.m. heimavistarlíf og Menntaskólinn að Laugarvatni bauð upp á það. Á sama tíma þekkti ég örfáa í skólanum og þau hvöttu mig einnig til þess að koma,“ segir Andrea Lind Hannah, en hún hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi frá ML fyrr í sumar. Hún bætir við að heimavistarlífið hafi verið gott á marga vegu en það hafi einnig stundum getað reynst erfitt. „Maður hafði ekki alltaf öll þægindin sem maður nýtur heima hjá sér og oft vantaði eitthvað. En að hafa vini sína alltaf nálægt bætti það ágætlega upp. Það er æðislegt að eiga heima með vinum sínum og geta alltaf séð þá en það gerir það enn erfiðara þegar maður þarf síðan að fara frá þeim. Maður verður svo náinn fólkinu og vanur að sjá það hvenær sem er. Söknuðurinn verður því mun meiri.“ Listir og tölvunarfræði Andrea Lind hefur mikinn áhuga á leiklist, söng og list almennt í flestum ef ekki öllum myndum. „Ég hef einnig gaman af því að ferðast og bera saman menningar og kynnast þeim. Án þess að fara of djúpt í það þá hef ég gaman af sköpun, hvort sem hún kemur frá mér eða öðrum; og hugsun - að hafa gaman af lífinu, kynnast fólki og rækta sambönd. Þetta tengist náminu á einhvern veg. Ég lauk námi á félagsfræðibraut en ég var á málabraut og listnámsbraut áður þannig að þetta tengist allt á ákveðinn hátt.“
Það sem tekur við í haust haust hjá Andreu Lind er vinnan í verslun afa hennar, Georgs V. Hannah, en frekara nám er áætlað í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík haustið 2016. Þegar lengra er litið inn í framtíðina gæti Andrea Lind hugsað sér að verða söngkona, leikkona og tölvunarfræðingur. Hún telur mikilvægustu lífsviðhorfin vera að bera virðingu fyrir hlutum
og fólki. „Einnig að hafa opinn huga, vera víðsýn og reyna að sjá hlutina frá öðrum sjónarhornum en manns eigin.“ Spurð um hvaða eiginleikar hennar nýtast henni best í lífi og starfi segist hún ekki alveg vera viss um hverju hún á að svara. „En ég ágæt í að vingast við fólk og bæta vinnuanda þegar fólk tekur við mér.“
8
fimmtudagur 9. júlí 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-viðtal
pósturu olgabjort@vf.is
Ellert Grétarsson þekkir „undirheima“ Reykjanessins betur en flestir. Hann fer þó aldrei einn í hellaferð:
ENGAR GRÝLUR OG LEPPALÚÐAR ÞARNA NIÐRI
Hraunhellar eru margir hverjir afar litríkir. Þessi mynd er tekin í Arnarkeri í Leitarhrauni.
F
áir hafa sérhæft sig í hellaljósmyndun á Íslandi. Keflvíski ljósmyndarinn Ellert Grétarsson þekkir líklega Reykjanesið neðanjarðar best allra og hefur vakið athygli fyrir hrífandi hellamyndir og ýmsar myndir af fallegum andartökum í náttúrunni, enda er svæðið eitt mesta hellasvæði landsins. Ellert segir hellana misskilda sem hættulega staði. Þeir hafi staðið af sér fjölda jarðskjálfta og þar búi hvorki forynjur né myrkraverur. Ellert eignaðist sína fyrstu myndvél fyrir um það bil 40 árum þegar hann var í sveit norður í Kelduhverfi. „Pabbi sendi mér Kodak Instamatic í sveitina en því miður eru myndirnar sem ég tók á hana glataðar. Segja má að ljósmyndunin hafi verið hluti af lífi mínu æ síðan, með einhverjum hléum að vísu,“ segir Ellert, sem starfaði að hluta til sem blaðaljósmyndari um árabil en fyrir nokkrum árum ákvað hann að afmarka sig eingöngu við náttúruljósmyndun. Hans stærsta verkefni á því sviði hefur verið að ljósmynda náttúruperlur Reykjanesskagans í ótal gönguferðum í nærfellt áratug.
Hraun getur tekið á sig hreint ótrúlegar myndir. Þetta fallega rósamynstur er að finna í helli einum upp í Bláfjöllum.
Í hellinum Búra er hátt til lofts, vítt til veggja og mikil litadýrð. National Geographic hefur sagt hann vera fallegasta hraunrásarhelli á jörðinni.
Markmiðið að klára að ljósmynda sem flesta hellanna áður en ég verð of gamall í þetta
Reykjanes eitt mesta hellasvæði landsins: Fyrir nokkrum misserum hóf Ellert svo að ljósmynda þá náttúru skagans sem flestum er hulin, sjálfa hraunhellana, en Reykjanesskaginn er eitt mesta hellasvæði landsins. „Mér fannst þetta góð viðbót við verkefnið en tilgangur minn með því var að undirstrika vægi og gildi náttúruverndar á svæðinu. Ég hef beitt mér talsvert í náttúru-
verndarbaráttunni undanfarin ár og þar hefur myndmálið haft mikla þýðingu. Í þessu skyni langaði mig að sýna fólki heildarmyndina af þeirri stórkostlegu náttúru sem Reykjanesskaginn hefur að geyma, ofan- og neðanjarðar,“ segir Ellert. Eftir allan þennan tíma á hann orðið mjög heilstætt og umfangsmikið myndasafn af náttúru skagans. Stiklaði á stórgrýti í 6 tíma Ellert segir hellaljósmyndunina vera skemmtilega og gefandi vegna þess að hellarnir komi sífellt á óvart. „Þarna niðri sér maður stundum svo magnaðar hraunmyndanir að maður hreinlega gapir af undrun. Hraunið getur tekið á sig svo ótrúlegar myndir. Í hellunum er algjört myrkur og engin náttúruleg skíma. Dropsteinar eru meðal viðkvæmustu djásna í íslenskri náttúru. Þeir eru friðlýstir en hafa því miður oft orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum. En þú sérð svona, ekki snerta – bara horfa.
9
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 9. júlí 2015 Lýsingin ræðst því algjörlega af þeim ljósgjafa sem maður tekur með sér niður í hellana og maður hefur hana algjörlega í hendi sér. Það er því hægt að leika sér með lýsinguna eins og maður vill, sem getur verið bæði skemmtilegt og skapandi.“ Eins og gefur að skilja er þessi tegund ljósmyndunar einnig afar krefjandi og reynir gríðarlega mikið á bæði mann og tæki. „Oft þarf að skríða og bogra með tækin langar leiðir en auk myndavélar þarf maður að hafa öflugan ljósabúnað og aðra fylgihluti. Nýlega fór ég í leiðangur í einn af lengri hraunhellum Reykjanesskagans þar sem ég þurfti að stikla á stórgrýti og ís í sex klukkustundir með græjurnar hangandi utan á mér. Ég var algjörlega örmagna þegar ég kom upp á yfirborðið aftur. Þannig að núna er markmiðið að klára að ljósmynda sem flesta hellanna áður en ég verð of gamall í þetta,“ segir Ellert kíminn. Hundruð og þúsund ára hellar Ellert varð þess fljótt áskynja að fólk hrífst mjög af þeirri náttúru og undaveröld sem það sér í myndunum en segir að mörgum finnist
það samt sem áður ógnvænleg tilhugsun að skríða niður í myrkrið. „Ég er oft spurður að því hvort ég sé ekki hræddur um að hellarnir hrynji saman ef það kæmi t.d jarðskjálfti. Staðreyndin er sú að þessar hellar hafa verið þarna í mörg hundruð og jafnvel þúsundir ára og staðið af sér alla jarðskjálfta. Við erum líka alin upp við það að hellar séu vondir og hættulegir staðir. Við erum alin upp við sögur af alls konar illþýði sem býr í hellum, t.d. Grýla og Leppalúði. Við þekkjum það líka í kvikmyndasögunni að ef einhver hættir sér inn í helli er viðkomandi yfirleitt kominn í mikil vandræði. Þar búi alls kyns forynjur, skrímsli, púkar og aðrar myrkraverur. Hellaferðir geta einungis verið hættulegar ef maður gætir ekki öryggis.“ Ellert segist til dæmis aldrei fara einn í hellaferð því hann sé algjörlega sambandslaus þarna niðri ef eitthvað kemur upp á. „Maður sér ekki margar góðar hellamyndir í umferð enda fáir sem hafa sérhæft sig í hellaljósmyndun hér á landi. Það er því gaman að fara fáfarnar slóðir á sviði ljósmyndunar og gera eitthvað öðruvísi. Það skemmir heldur ekki að ég hef mikinn áhuga á jarðfræði,“ segir Ellert að lokum.
Síðla vetrar eru tilkomumiklar ísmyndanir í mörgum hellum. Þessi mynd er tekin í Raufarhálshelli snemma í vor.
Fjölmörg dæmi eru um mannvistarleifar í hellum. Í Húshelli eru fornar hleðslur sem talið er að geti verið eftir útilegumenn sem þarna hafa fundið sér skjól. Í hellinum er einnig að finna dýrabein, m.a. úr hreindýri en þau höfðust við á Reykjaneskaga um miðja 18. öldina.
RÉTTU GRÆJURNAR FYRIR HEIMILIÐ OG SUMARFRÍIÐ Frábær í ferðalagið
SONY X-TANK Bass Bazuka, 500W og 14 kg af soundi
Verð 69.990 kr. Rosalegt hljómtæki frá Sony, fullt af ljósum og fullt af hávaða ! Bass Bazuca. 500W magnari, útvarp með 20 stöðva minni og Bluetooth þráðlaus tenging. USB inngangur.
HAFNARGATA 40 - S. 422 2200
LENOVO B50
SONY
LENOVO
Ódýr og góð fartölva
BLUETOOTH SRSX2
IDEATAB A7-40
Verð 59.990 kr.
Verð 19.990 kr.
Verð 19.990 kr.
Örgjörvi Intel Celeron N2840 2,16-2,58GHz dual core 1MB Minni 4GB (8GB mest) Skjár 15,6” HD m. myndavél Upplausn: 1366x768 punkta Diskur 500 GB Skjákort Intel HD Stýrikerfi Windows 8.1 64bita
Tengdu símann við þennan öfluga hátalara. Fáanleg í þremur flottum litum, svörtu, hvítu og rauðu
Spræk og skemmtileg spjaldtölva. Hentar vel í alla afspilun og leiki. Hulstur og heyrnartól fylgja með
REYKJANESBÆ
10
fimmtudagur 9. júlí 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
Sífelld fjölgun á ferðamönnum í Garðinum:
Stefnt að uppbyggingu Garðskagans sem ferðamannastaðar -góður gangur í Garðinum. Tómar íbúðir að fyllast. „Garðskaginn er alltaf að verða vinsælli og vinsælli ferðamannastaður og þar hefur þó nokkur uppbygging átt sér stað varðandi hinn sístækkandi ferðamannaiðnað. Garðskagavitinn hefur alltaf sitt aðdráttarafl sem og fjaran þar í kring. Þá hefur verið byggð upp glæsileg veitingaaðstaða á svæðinu. Garðurinn hefur einnig skapað sér ákveðna sérstöðu með því að rukka ekki fyrir aðgang að tjaldsvæði bæjarins á Garðskaganum,“ sagði Einar Jón Pálsson, forseti bæjarstjórnar Garðs í viðtali við Víkurfréttir að lokinni vel heppnaðri Sólseturshátíð um næst síðustu helgi. „Það hefur ekki verið stefnan hingað til að rukka fólk fyrir aðgang að tjaldsvæðinu á Garðskaganum en við höfum verið í vinnu núna í vetur við stefnumótum og munum kynna hana svona í lok sumars varðandi stefnumótum fyrir Garðskagann. Þar munum við kynna hvernig við sjáum fyrir okkur framtíðin hér varðandi ferðamannaiðnaðinn. Stefnan er að halda áfram að byggja upp og gera enn betur fyrir ferðamanninn. Við v i lju m au ð Einar Jón Pálsson, forseti vitað ekki bara bæjarstjórnar Garðs fá ferðamanninn hingað til að njóta náttúrunnar, við viljum líka byggja upp atvinnu í kringum hann, taka á móti ferðamanninum og hafa af honum aur, þetta byggist á því og skapa þannig störf í tengslum við þennan iðnað.“ Heppin með veður „Sólseturshátíðin fór bara mjög vel fram eins og venjulega hjá okkur. Veðrið hefur leikið við okkur þessa vikuna eins og svo oft áður, við höfum oftast verið mjög heppnir með veður á hátíðinni á þessum árstíma. Þannig að hér eru bara allir mjög sáttir, þetta var vel heppnuð hátíð í alla staði og tókst mjög vel á allan hátt,“ segir Einar Jón. Glæsileg dagskrá var alla hátíðardagana og ljóst að mikið starf er unnið af mjög mörgum til að svona hátíð takist vel. Af mörgu þarf að hyggja og menn og konur þurfa að vinna sem ein heild til að allt gangi vel fyrir sig. Einar segir að hátíðin í ár hafi verið byggð upp á sama hátt og undanfarin ár. „Það er knattspyrnufélagið Viðir sem ber hitann og þungan af undirbúningi
hátíðarinnar og fær greitt fyrir það af bænum. Það fólk sem er þar í forsvari á mestan og stærstan heiðurinn af þeirri dagskrá sem hér hefur verið. Það er búin að vera fjölbreytt dagskrá alla vikuna fyrir alla aldurshópa. Dagskráin hjá okkur byrjaði á mánudaginn og endaði í dag, sunnudag. Þetta er bara glæsilega að verki staðið hjá þeim einstaklingum sem stóðu að þessu og öllum þeim sem komu að þessu.“ Samvinna skiptir öllu máli Hvað finnst þér hafa borið hæst á hátíðinni? „Það er voðalega erfitt að segja hvað bar hæst. Það er best að gera ekki upp á milli dagskrárliða. Mér fannst bara einkar góð dagskrá á allri hátíðinni. Ef maður á kannski að vera svolítið eigingjarn þá var blakmótið á föstudagskvöldið bara mjög skemmtilegt. Við unnum, mitt lið, erum taplausir ennþá,“ sagði Einar hlæjandi, greinilega mjög sáttur við sína menn. Skiptir ekki miklu máli að fá sem flesta til að vinna saman sem ein heild þegar kemur að svona hátíðarhöldum? „Jú alveg hiklaust. Þetta byggist á samvinnu. Samvinna er það sem skiptir öllu máli. Þeir sem eru í forsvari fyrir knattspyrnufélagið Víðir hafa tekið þetta að sér og samstarf þeirra við aðra íbúa í bænum hefur gengið mjög vel. Svo er auðvitað gaman að sjá hvað einstaklingar í bænum eru tilbúnir til að taka þátt, skreyta hús sín og slíkt. Við höfum viljað kalla þetta hátíð fyrir íbúa á svæðinu. Við erum ekki endilega að hugsa um að fá sem flesta hingað heldur að gera vel fyrir þá sem eru á svæðinu, íbúa Suðurnesja og aðra þá sem vilja koma og taka þátt í þessu og eiga góða stund með okkur hér í Garðinum.“
Sjávarútvegur og náungakærleikur Hvernig er hægt að lýsa samfélaginu í Garðinum? „Samfélagið í Garðinum er svona týpískt lítið samfélag þar sem flestir þekkja alla, ekki kannski endilega eins og hér áður fyrr þegar maður sjálfur var yngri, þar sem allir þekktu alla. Við reynum samt og viljum vera lítið samfélag þar sem náunginn er tilbúinn að hjálpa hvor öðrum. Það hefur okkur tekist mjög vel á þessari Sólseturshátíð þar sem fólk kemur saman og hjálpast að. Þetta byggist mikið upp á félagasamtökum innan Garðsins á þann hátt að fólk kemur saman innan þessara félagasamtaka og vinnur saman, fyrir hvort annað hérna í Garðinum.“ Hvernig stendur atvinnulífið í Garðinum? „Það byggist upp á fisk og fiskvinnslu eins og verið hefur í gegnum tíðina, kannski ekki eins mikið og verið hefur en hérna eru öflug fyrirtæki sem stunda sjávarútveginn og það er óhætt að segja að Garðurinn sé öflugt sjávarpláss.“ Garðurinn hefur löngum haft orð á sér fyrir að vera nokkuð blátt samfélag varðandi pólitík og Sjálfstæðismenn hafa löngum haldið þar um stjórnartaumana. Þeir misstu þó völdin um hríð en eru nú með hreinan meirihluta með D-lista og óháðra. Hvíldarár er varðar fjárfestingar Hvernig gengur hið pólitíska samstarf í Garðinum? „Já já það er alveg rétt, þetta hefur oft verið talið nokkuð blátt sveitarfélag og það er það vissulega og þó að það hafi komi smá rispa í það þá jafnar það sig eins og svo margt annað. En pólitíkin í Garðinum er þannig að hér starfa allir saman og það hefur gengið mjög vel. Við viljum að sem
flestir komi að og starfi saman, þannig hefur okkur gengið best.“ Hvaða verkefni eru stærst hjá sveitarfélaginu um þessar mundir? „Það má segja að við höfum ákveðið að þetta ár núna í ár verði hálfgert hvíldarár hvað varðar stór verkefni og fjárfestingar. Við höfum verið að fjárfesta mikið undanfarið, nýbygging á íþróttahúsinu sem við tókum í notkun á síðasta ári var okkar stærsta verkefni. Þannig að við ákváðum að fara ekki út í neinar miklar fjárfestingar á þessu ári því að við þurfum náttúrulega að standast allar viðmiðunarreglur sveitarfélaga um fjárhaginn. Þannig að við ákváðum því að vera mjög róleg varðandi stór verkefni í ár og erum bara svona að fegra bæinn okkar smám saman.“ Áhugi fyrir því að flytjast í Garðinn Hvernig er fjárhagsleg staða sveitarfélagsins Garðs? „Staða sveitarfélagsins er góð, við skuldum mjög lítið og það er það sem hjálpar sveitarfélaginu. Þegar við seldum hlut okkur í Hitaveitu Suðurnesja á sínum tíma, notuðum við hluta þeirra peninga til að greiða niður skuldir sveitarfélagsins. Það, að greiða niður skuldir sveitarfélagsins, hafði stór áhrif. Við höfum fjárfest fyrir þá peninga, bæði með því að greiða niður skuldir og með því að byggja upp. Allar undirstöður samfélagsins eru til staðar hér í Garðinum, góður skóli, gott íþróttahús,
þannig að hér er öll aðstaða til staðar fyrir fólk til að koma og lifa í góðu sjávarplássi. Er auðvelt fyrir utanbæjarfólk að setjast að í Garðinum í dag? „Ég mundi segja að það væri auðvelt já. Það hefur verið mikið af tómum íbúðum en það er svona að fyllast í þær núna. Það er eins og það sé áhugi fyrir því að flytjast á svæðið sem er jákvætt. Þær íbúðir sem hafa verið tómar eru smám saman að fyllast. Það hefur verið auðvelt að fá vinnu, bæði hér, í nágrannasveitarfélögunum og eins upp á flugvelli, þannig að það er stutt að sækja vinnu. Alþjóðaflugvöllurinn er hérna bara í túnjaðrinum svo að segja við hliðina á okkur í Garðinum. Við megum ekki gleyma því að hringtorgið við flugstöðina er í Garði þannig að það er stutt að fara í vinnu og í flugstöðinni er mikil uppbygging í gangi og virðist vera mikil vinna framundan þar.“ Hvað er framundan hjá bæjaryfirvöldum í Garði? „Við stefnum að því að halda bara áfram á sömu braut. Við viljum vera sveitarfélag sem vandar sig við það sem við erum að gera, sveitarfélag þar sem fólk getur notið náttúrunnar og haft það náðugt í rólegu og góðu umhverfi. Sólseturshátíðin er búin að vera alveg frábær og fullt af fólki sem naut þessarar yndislegu hátíðar með okkur. Svona er þetta ekki bara á Sólseturshátíðinni, svona er þetta meira og minna alltaf hérna í Garðinum,“ sagði Einar Jón að lokum.
Einar Jón og Heiðar Heiðarsson félagi hans í bæjarstjórn.
PIPAR \ TBWA •
SÍA •
152175
Lion Bar
Lítill
Súkkuberja
Stór
Myntulaði
daga kl. 14 –17 349 KR. 499 KR. 2fyrir1 Virka
12
fimmtudagur 9. júlí 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
María Steinþórsdóttir
Linda
UMSJÓN: PÁLL ORRI PÁLSSON POP@VF.IS
Bjart allan sólarhringinn Linda María Steinþórsdóttir er 16 ára Keflvíkingur og starfar hjá Subway í sumar. Hún ætlar sér í sumarfrí til Þýskalands og fer svo í Lake Nona High School í Florida í haust. Aldur og búseta? Ég er 16 ára og bý í Keflavík Starf eða nemi? Vinn á Subway yfir sumarið og er í Lake Nona Hiigh School úti í Bandaríkjunum. Hvernig hefur sumarið verið hja þér? Bara mjööög fínt, alltaf gott að vera heima á Íslandi. Hvar verður þú að vinna í sumar? Á Subway. Hvernig á að verja sumarfríinu? Bara njóta mín hérna á Íslandi áður en ég fer aftur út. Ætlar þú að ferðast í sumar og hvert þá? Já, til Þýskalands til vinkonu minnar og svo til Florida. Eftirlætis staður á Íslandi? Seljalandsfoss og Þingvellir. Hvað einkennir íslenskt sumar? Hversu bjart það er allan sólarhringinn.
GRÓÐURSETTU TRÉ Í PARADÍS
- til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur fv. forseta Íslands
Ó
löf Rós Davíðsdóttir 5 ára og Ágúst Fannar Ástþórsson 4 ára gróðursettu nýverið trjáplöntur í Paradís í hlíðum Grænáss ásamt Söru Ross Bjarnadóttur. Hún bar fulltrúa komandi kynslóða undir belti en henni mun fæðast barn í nóvember. Gróðursetningin var í tilefni af því að 35 ár eru liðin frá kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands. Vigdís hafði það til siðs í embætti sínu sem forseti að gróðursetja ávallt þrjár trjáplöntur þar sem hún
kom. Eina fyrir stúlkur, aðra fyrir drengi og þá þriðju fyrir komandi kynslóðir. Sólveig Þórðardóttir, ljósmóðir og fyrrverandi forseti bæjarstjórnar í Njarðvík og fyrst kvenna til að gegna því hlutverki í bæjarstjórn Njarðvíkur flutti ávarp við þetta tækifæri. Það gerði einnig Anna Lóa Ólafsdóttir, núverandi forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Meðfylgjandi myndir voru teknar við athöfnina. VF-myndir: Hilmar Bragi
Vatnsblöðruslagur í Innri-Njarðvík
Áhugamál þín? Teikna og hlaupa (eða frjálsar íþróttir) alveg elska það. Einhver sem þú stundar aðeins á sumrin? Fara bara í sumarbústað og vera úti með vinum minum. Hvað ætlar þú að gera um Verslunarmannahelgina? Örugglega bara vinna eða það held ég. Hvað fær þig til þess komast í sumarfíling? Að vera úti svo lengi að þú gleymir þér út af birtunni og góð tónlist auðvitað. Hver er sumarsmellurinn í ár að þínu mati? Shots - Imagine Dragons (Broiler Remix). Hvað er það besta við íslenskt sumar? Birtan, fólkið og stemningin. En versta? Ef það rignir allt sumarið.
Í
vettvangsferðum sínum um götur sveitarfélaganna kemur lögreglan auga á ýmsilegt og þarf stundum að stilla til friðar. Sem betur fer eru ekki öll slagsmál af hinu slæma eins og í ljós kom við eina af götum í Innri-Njarðvík á dögunum. Þarf höfðu
Uppáhalds grillmatur? Góð steik með bakaðri kartöflu og ískalt Coke. Sumardrykkurinn? Mountain Dew.
Vilja umhverfisvitundina út fyrir lóðamörkin:
Óskað eftir ábendingum um fallegt umhverfi
Þ
GOTT TÆKIFÆRI Á SUÐURNESJUM Til sölu er framleiðsla á frábærum síldarvörum og steiktum fiskibollum. Þekkt vörumerki síðan árið 1988 og er í vöruvali í flestum verslunum landsins. Áhugasamir sendi nafn og símanúmer á netfangið budeitt@gmail.com og verður þá haft samband.
ungir sem aldnir hópast saman í vatnsblöðruslag með tilheyrandi gleði og ærslagangi. Lögreglan sá ekki ástæðu til þess að stöðva slagsmálin að þessu sinni heldur tók þessa skemmtilegu mynd og birti á Facebook síðu sinni.
að hefur viðrað vel til garðverka á undanförnum vikum og margir íbúar bæjarins hafa tekið til hendinni heimavið. En það er engin ástæða til að stoppa þar heldur upplagt að líta í kringum sig og láta umhverfisvitundina ná aðeins lengra út í sitt nánasta umhverfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjanesbæ. Á næstu vikum mun Berglind Ásgeirsdóttir, garðyrkjufræðingur Reykjanesbæjar, taka á móti ábendingum frá íbúum um nágranna og fyrirtæki sem eru að gera góða hluti í umhverfismálum. Það er hagur allra íbúa bæjarins að umhverfið sé snyrti-
legt og að umhverfisvitundin nái út fyrir lóðamörkin. Vinnuskóli Reykjanesbæjar og Hverfisvinir eru þeir aðilar á vegum Reykjanesbæjar sem sinna umhverfismálum, gróðursetningu, snyrtingu og hreinsun. Þrátt fyrir góðan vilja ná þessir aðilar aldrei að sinna öllum Reykjanesbæ og þá er íbúanna að hjálpa til. Í sumarlok mun Umhverfissvið veita umhverfisviðurkenningar til íbúa og fyrirtækja. Óskað er eftir ábendingum frá íbúum bæjarins um fallega garða, fallega endurbyggingu á gömlum húsum og lóðum hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Hægt er að senda ábendingar á netfangið-
berglind.asgeirsdottir@reykjanesbaer.is eða hringja í Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar í síma 420-3200, milli kl. 08:00 og 16:00. Verðlaunaafhending fer fram við upphaf Ljósanæturhátíðar svo það er kjörið að nota tækifærið og koma bænum í sitt fínasta púss fyrir hátíðina. Munum að þetta er bærinn okkar og ábyrgðin okkar. Góð umhverfisvitund felst m.a. í því að ganga vel um og setja úrgangi í viðeigandi ílát. Þetta vita leikskólabörnin á Tjarnarseli og hvetja bæjarbúa til að ganga vel um bæinn sinn með þessu skilti framan við Ráðhús Reykjanesbæjar.
ÍSLENSKA/SIA.IS ENN 74360 06/15
Náðu í Vegabréf N1 á næstu N1 stöð og byrjaðu strax að safna stimplum. Við hvern stimpil færðu skemmtilega stimpilgjöf. Þegar Vegabréfið er fullstimplað skilarðu því inn á næstu N1 stöð og getur átt von á glæsilegum vinningum.
Það rignir stimpilgjöfum á N1 í sumar! Hluti af ferðasumrinu
14
fimmtudagur 9. júlí 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir
Auglýsing um skipulagsreglur fyrir Keflavíkurflugvöll Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar f.h. innanríkisráðuneytisins auglýsir hér með kynningu á skipulagsreglum fyrir Keflavíkurflugvöll. Í samræmi við heimild í 59. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum, hefur innanríkisráðherra ákveðið að setja skipulagsreglur fyrir Keflavíkurflugvöll. Reglurnar hafa m.a. að geyma fyrirmæli um: a) Skipulag innan flugvallarsvæðisins. b) Svæði utan flugvallar þar sem rétt er að setja takmörkun á hæð mannvirkja og annarra hluta, t.d. húsa, stanga og trjáa, eða takmörkun á meðferð fasteigna eða hlutar, enda eru slíkar kvaðir eða fyrirmæli nauðsynleg í þágu almenns öryggis. c) Svæði utan flugvallar þar sem rétt er að setja takmörkun á notkun sýnilegra leysigeisla eða sambærilegra ljósa, enda eru slíkar kvaðir eða fyrirmæli nauðsynleg í þágu almenns öryggis. Tilgangur og markmið skipulagsreglnanna er: • Að tryggja flugöryggi vallarins með því að binda í skipulag hæðartakmarkanir sem nauðsynlegar eru vegna öryggis flugvallarstarfseminnar. • Að einfalda umfjöllun og ákvarðanatöku um hæðir húsa innan og í nágrenni flugvallarins. • Að tryggja flugöryggi vallarins og flugumferðar með því að binda í skipulag leysigeislatakmarkanir. Með reglunum er verið að festa í sess skipulag hindranaflata vallarins og þar með takmarkanir á hæðum húsa á tilteknum svæðum. Eru hindranafletir þessir byggðir á skilgreiningum alþjóðlegra skuldbindinga t.d. Chicago-samningsins, viðauka hans og annars leiðbeinandi efnis Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, lögum um loftferðir nr. 60 frá 1998 og reglugerð um flugvelli nr. 464 frá 2007. Einnig er verið að festa í sessi, eftir ákvæðum sömu skuldbindinga, laga og reglugerða, skipulag takmörkunarsvæða á notkun leysigeisla. Tillagan tekur til svæðis með takmörkunum vegna hindrana og svæðis með banni eða takmörkunum á notkun sýnilegra leysigeisla eða sambærilegra ljósa. Tillagan nær yfir Keflavíkurflugvöll og svæði í nágrenni flugvallarins. Tillagan er sett fram í textaskjali og á 4 uppdráttum (I, II, III og IV). Tillaga að skipulagsreglum fyrir Keflavíkurflugvöll verður til sýnis á skrifstofu skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á heimasíðu Keflavíkurflugvallar (http://www.kefairport.is/Flytileidir/Um-felagid/ Skipulagsmal/) frá og með 10. júlí 2015 . Skorað er á fasteignaeigendur á og í nágrenni við Keflavíkurflugvöll og aðra hagsmunaaðila að kynna sér fyrirliggjandi drög að skipulagsreglum. Athugasemdir eða ábendingar við tillöguna skulu vera skriflegar og berast til: Skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 235 Keflavíkurflugvelli eða sveinn.valdimarsson@isavia.is. Frestur til að gera athugasemdir rennur út 24. ágúst 2015. Eftir þann tíma verður ekki tekið við athugasemdum. Litið er svo á að þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljist henni samþykkir. Eftir kynningartíma verða athugasemdir og ábendingar sem berast teknar til ítarlegrar athugunar. Verði ákveðið að ráðast í breytingar á tillögunni vegna athugasemdanna verða þær breytingar kynntar hlutaðeigandi áður en gengið verður endanlega frá reglunum. Auglýsing um gildistöku reglnanna verður birt í Lögbirtingablaðinu. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Valdimarsson hjá Isavia ohf., netfang: sveinn.valdimarsson@isavia.is, s : 425-6419
Elías Ómarsson vekur mikla lukku í Noregi:
„Vi har Omarsson!“ Elías Ómarsson kvaddi Ísland og Pepsí deildina síðastliðið haust þegar hann ákvað að söðla um og ganga til liðs við norska úrvalsdeildarliðið Valerenga. Elías, sem er fæddur árið 1995, var útnefndur efnilegasti leikmaður Pepsí deildarinnar á síðasta ári og fylgdi þar með í fótspor Arnórs Ingva Traustasonar sem fékk sömu útnefningu árið áður og hélt utan í atvinnumennskuna. Nýr kafli í knattspyrnuferli Elíasar er nú hafinn þar sem Valerenga hefur spilað vel í norsku deildinni og eru á meðal þriggja efstu liða þegar þetta er skrifað og hefur okkar maður komið þónokkuð við sögu í velgengi liðsins, en Elías skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á Odd um síðustu helgi og vann hug og hjörtu stuðningsmanna. Elías gaf sér nokkrar mínútur til að spjalla við blaðamann Víkurfrétta um lífið og fótboltann í Noregi.
S
íðustu vikur hafa verið afar góðar hjá þér. Þú skorar mark í 3-0 sigri U21 landsliðsins á Makedóníu og skorar svo tvö mörk fyrir aðallið Valerenga í 2-1 sigri á Odd um liðna helgi. Hver hefur verið lykillinn að þessari velgengni? „Ég hef verið að taka mikið af aukaæfingum. Ég byrja nokkrum sinnum í viku klukkan 8 á morgnana á styrktaræfingum með sjúkraþjálfaranum okkar og er svo yfirleitt lengur eftir allar æfingar að vinna aukalega í mínum leik þar sem ég er mikið í því að æfa að klára færi.“ Eftir leikinn á móti Odd var þér fagnað eins og þjóðhetju af stuðningsmönnum liðsins sem kyrjuðu nafn þitt löngu eftir að leik lauk. Hvernig tilfinning var það? „Þessi tilfinning var hreint út sagt ólýsanleg. Ég var fyrst og fremst ánægður með að vinna leikinn og að skora 2 mörk. Það skemmdi ekkert fyrir hvað stuðningmennirnir voru góðir og studdu mig og allt liðið í heild sinni.“ Setur það ekki aukna pressu á þig að vera líkt við Viðar Örn Kjartansson í viðtölum ytra, Viðar auðvitað með ótrúlegt tímabil í fyrra eins og flestir þekkja og skoraði 25 mörk í 29 leikjum fyrir Valerenga? „Ég hugsa voða lítið út í það. Viðar gerði ótrúlega góða hluti hérna og ég væri alveg til í að ná sama árangri, ef ekki betri en það verður erfitt að toppa hans árangur. Ég mæti tilbúinn í hvern einasta leik og legg mig alltaf 100% fram og vonandi skilar það góðum árangri.“ Hefur frammistaða þín með liðinu í síðasta leik aukið frægð þína í heimabænum? Eru stelpurnar byrjaðar að flauta á eftir þér úti á götu? „Haha, ég get ekki sagt það en hef jú fengið nokkrar vinabeiðnir á Facebook og svo hefur aukist smá í followers á bæði twitter og instagram en ég pæli svo sem ekkert í því. Það hefur reyndar ekkert verið flautað neitt á eftir mér hingað til.“ Hvernig hefur þér gengið að aðlagast fótboltanum og lífinu í Noregi hingað til? „Bara virkilega vel, þetta er fljótt að koma. Ég hef komist í betra form og
hlaupagetan mín er mun meiri en hún var. Mér líður rosalega vel hérna í Noregi, þetta er svolítið öðruvísi en í Keflavík, mun meira líf á götunum hérna og alltaf eitthvað hægt að gera.“ Eðlilega hlýtur að vera töluverð breyting að fara úr Pepsí deildinni í norsku úrvalsdeildina, er eitthvað sem hefur komið þér á óvart í þessu ferli fram að þessu? „Já, það er töluverð breyting. Það er mun meiri hraði, meiri gæði og svo er deildin náttúrulega töluvert lengri þar sem það eru fleiri lið í deildinni hérna. Það hefur svo sem ekki mikið komið mér á óvart.“ Finnst þér þú eiga heima í byrjunarliði Valerenga miðað við hvað þú hefur sýnt að undanförnu í leikjum og á æfingum? „Miðað við síðasta leik sem ég spilaði þá finnst mér ég verðskulda byrjunarliðssætið en það er ekkert sem ég get gert í því nema að vinna vel og standa mig á öllum æfingum og í öllum leikjum því á endanum velur þjálfarinn ellefu leikmenn sem hann heldur að geti unnið leikinn. Það er hann sem skoðar myndbönd af leikjum mótherjana og hann stillir liðinu upp eftir því hvernig taktík hann vill spila á móti þeim og maður þarf að virða það.“ Hvernig er týpískur dagur í lífi Elíasar Ómarssonar í dag? Ég vakna alla morgna kl. 06:50 eða 7:50 eða 6:50, nema á frídögum liðsins og fer frammúr og fæ mér morgunnmat. Svo rölti ég á æfingu með tónlist í eyrunum, fæ mér kaffibolla í klefanum og fer svo á æfingu. Eftir æfingu borðum við á æfingasvæðinu og svo rölti ég bara heim. Er yfirleitt búinn að öllu í síðasta lagi 12:30, svo á ég bara allan daginn fyrir mig.“ Hvernig meturðu möguleika liðsins í deildinni í ár? „Við eigum ennþá ágæta möguleika á að vinna deildina, við erum í þriðja sæti núna aðeins 6 stigum fyrir aftan Rosenborg sem eru á toppnum. Viið stefnum á efstu þrjú sætin og erum þar núna en það er helmingurinn eftir af deildinni og við förum ekkert frammúr okkur og tökum einn leik fyrir í einu. Við erum að spila vel en það hafa dottið inn leikir
sem við „eigum“ að vinna en höfum verið kærulausir og misst nokkra frá okkur.“ Hvað með framtíðarmarkmið? Seturðu markið á stærri deildir í Evrópu seinna meir? „Markmiðið mitt núna er að komast í byrjunarliðið hjá Valerenga. Ég er ennþá ungur og ég er samningsbundinn þeim. Ég er að reyna að vinna mig inn í byrjunarliðið, þannig að ég hugsa ekkert of langt út fyrir það. Ég er einbeittur á að vinna vel á öllum æfingum og í öllum leikjum til að ná því markmiði. En auðvitað er stefnan tekin hátt hjá mér, ég vil spila í stærri deild og þarf því að vinna hart til þess að það takist.“ Nú eru væntingar fólks til þin ábyggilega miklar sem setur aukna pressu á ungar herðar. Hvernig tækla ungir atvinnumenn andlegu hliðina á atvinnumennskunni til að hámarka sinn árangur? „Ég persónulega fæ bara meira „boost“ út úr því. Sama hvað fólk mun segja um mig, hvort sem það sé slæmt eða gott, þá mun ég ennþá vinna eins mikið og ég get fyrir liðið og það mun aldrei breytast. Fyrir síðasta leik á móti Odd hlustaði ég bara á stuðningsmannalög frá íslenskum liðum því það minnti mig svo mikið á það þegar ég var yngri að fara á fótboltamót með öllum strákunum þar sem við gistum allir saman í skóla. Þá fór ég að hugsa um hvað ég er heppinn að vera kominn hingað og fann alla leikgleðina koma í hausinn á mér og það er eitt það mikilvægasta fyrir mér. Að vera bara jákvæður og hugsa um gömlu tímana sem minnir mig á það af hverju ég er þar sem ég er núna.“ Þú ert líka í eldlínunni með U21 árs liði Íslands fyrir undankeppni EM. Hvernig líst þér á áframhaldið þar og hvaða möguleika á Ísland á því að komast uppúr þessum riðli? „Mér líst ótrúlega vel á það. Við erum með virkilega sterkt og gott lið. Við eigum góða möguleika á að komast uppúr þessum riðli þrátt fyrir að hann sé mjög erfiður. Við erum bara með það gott lið, góða þjálfara og svo er liðsheildin ótrúlega góð. Ég er mjög bjartsýnn á áframhaldið þar.“
15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 9. júlí 2015
pósturu siddi@vf.is
„Mætum dýrvitlausir til leiks“ K
-segir Einar Orri Einarsson, leikmaður Keflavíkur
eflavík sækir Leikni heim í 11. umferð Pepsí deildar karla á mánudag en tveggja vikna hlé hefur verið á deildinni vegna Evrópu- og bikarleikja. Keflvíkingar hafa ekki riðið feitum hesti það sem af er sumri og sitja sem fastast á botni deildarinnar með 4 stig, fjórum stigum á eftir liði ÍBV og fimm stigum frá fallsæti. Keflvíkingar hafa sótt liðsstyrk í sóknarmanninn Chuc wudi „Chuck“ Chijindu sem spilaði með Þór Akureyri í efstu deild hér á landi síðustu tvö sumur. Baráttujaxlinn Einar Orri Einarsson segir mikilvægi leiksins á mánudag vera töluvert og kveðst sáttur með nýjan liðsmann Keflavíkur.
því væri frábært að taka þrjú stig af þeim.“
vísi möguleika í sóknarleiknum sem mun reynast okkur vel.“
Þið fenguð tveggja vikna pásu frá deildinni á milli leikja, hefur liðið náð að nýta þann tíma til að slípa saman sinn leik? „Við byrjuðum á því að loka síðasta leik á þriðjudeginum og tókum svo góða æfingu á fimmtudeginum. Síðan datt fyrsta helgarfrí sumarsins inn sem að menn nýttu til þess að hlaða batteríin fyrir komandi átök, hvort sem það var í bústað með fjölskyldunni, á Akureyri eða bara heima hjá sér. Síðan keyrum við upp „actionið“ í þessari viku og mætum dýrvitlausir í leikinn á mánudag.“
Síðari hluti tímabilsins nálgast óðfluga og ljóst að Keflavík þarf að spyrna fast í botninn til að forðast falldrauginn. Hver verður lykillinn að því að þínu mati? „Hver og einn þarf að líta í eigin barm og kreista meira út úr sjáfum sér. Flestir, ef ekki allir, eiga fullt inni í okkar liði og nú er komið að því að sýna það. Eins og maðurinn sagði - you can talk the talk, but can you walk the walk?-“
„Já, auðvitað veldur þessi staða okkur áhyggjum en engu að síður þýðir ekkert að velta sér upp úr henni endalaust. Staðan er bara svona og breytist ekkert nema við förum að girða okkur í brók. Þessi leikur er extra mikilvægur því Leiknir er eitt af þeim liðum sem við stefnum á að komast yfir og
Þið fáið liðsstyrk í fremstu víglínu á dögunum þegar bandaríski framherjinn Chuck skrifar undir. Hvernig líst þér á þann liðsstyrk? „Mér líst ótrúlega vel á hann. Ég hef spilað við hann tvisvar sinnum og það er rosalega erfitt að ráða við hann. Hann heldur boltanum frábærlega og er góður slúttari líka. Hann á eftir að opna marga öðru-
Davíð smellti honum ofan í á 8. braut XXDavíð Jónsson í Golfklúbbi Suðurnesja gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 8. braut á Hólmsvelli í Leiru í gær. Davíð var rétt búinn að taka golfsettið úr bílskúrnum því þetta var fyrsti hringur sumarsins hjá kappanum. Hann notaði 9-járn og smellhitti boltann sem lenti á flöt og síðan beint í holu en hún var staðsett framarlega fyrir aftan glompuna, ein erfiðasta staðsetningin á flötinni. Meistaramót Golfklúbbs Suðurnesja hófst í gær það er stærsta mót ársins. Á annað hundrað kyflingar taka þátt og Hólmsvöllur skartar sínu fegursta.
5. flokkur Þróttar Vogum N1 meistari E-liða Þ
róttur Vogum vann um liðna helgi sigur á hinu geysivinsæla N1 móti sem haldið er hvert sumar á Akureyri. E-lið félagsins gerði sér lítið fyrir og vann sigur á mótinu eftir vítaspyrnukeppni við granna sína úr Keflavík.
Sjónvarp Víkurfrétta
er í stuttu sumarfríi en þó ekki alveg því við sýnum samantektarþætti með skemmtilegu efni frá liðnum mánuðum á ÍNN á fimmtudagskvöld kl. 21.30. Endursýningar á klukkustundar fresti og aftur um helgina. Einnig á vf.is.
- smáauglýsingar TIL SÖLU
Chuck til liðs við Keflvíkinga XXKeflvíkingar hafa samið við bandaríska framherjann Chukwudi Chijinju, betur þekktur sem Chuck, en hann hefur áður leikið með liði Þórs frá Akureyri í efstu deild hér á landi. Chuck verður ekki löglegur með liðinu fyrr en félagaskiptaglugginn opnar þann 15. júlí og nær hann því ekki leiknum gegn Leikni á mánudag en Keflvíkingar vonast til þess að Chuck færi sóknarlínu liðsins aukið líf. Keflvíkingar eiga von á því að styrkja sig enn frekar á meðan félagaskiptaglugginn er opinn.
Víðir með sinn fyrsta sigur XXVíðismenn unnu sinn fyrsta leik í 3. deildinni á þriðjudagskvöldið þegar liðið lagði KFR á útivelli, 0-2. Mörk Víðismanna skoruðu þeir Helgi Þór Jónsson og Davíð Hallgrímsson. Víðismenn lyftu sér fyrir vikið uppúr botnsæti 3. deildar en liðið er í 9. sæti með 5 stig.
Fjör í nágrannaslag
Það var fjör á Nesfisksvellinum í Garði þegar heimamenn mættu nágrönnum sínum úr Sandgerði í 3. deildinni í knattspyrnu í síðustu viku. Reynismenn voru mun sterkari í leiknum og unnu með einu marki Péturs Jaidee.
Íslendingurinn hafðu betur í hita leiksins - orðsins fyllstu merkingu:
Ágúst fyrstur í verðlaunasæti á Evrópumóti í taekwondo „Þetta var einn stærsti dagur sem ég hef upplifað sem þjálfari,“ segir Helgi Rafn Guðmundsson, en Ágúst Kristinn Eðvarðsson, keppandi taekwondo deildar Keflavíkur, varð á dögunum fyrsti Íslendingurinn til að komast í verðlaunasæti á Evrópumóti í taekwondo bardaga. Helgi Rafn bætir við að margir geri sér ekki grein fyrir hversu sterk svona mót eru. „Þarna eru Ólympíufarar framtíðarinnar sem margir hverjir æfa nú þegar eins og atvinnumenn. Ágúst sýndi okkur að maður fær það sem maður vinnur fyrir og að það skiptir máli að vera í sterkum hóp sem hjálpar manni.“
„Einn besti bardagi sem ég hef séð“ Mikill hiti er á þessum tíma árs í Serbíu og Helgi Rafn segir hann hafa verið kæfandi. „Ágúst var í sérflokki, stjórnaði bardögum og pressu frá byrjun. Á milli viðureigna var Ágúst settur í vökvun, kælingu og skuggann í nærliggjandi bílakjallara aftur til að reyna að halda smá orku.“ Ágúst sigraði m.a. fulltrúa Spánverja, sem er ein besta taekwondo þjóð heims. Voru m.a. stigahæsta lið síðustu Ólympíuleika. „Frammistaða hans á mótinu var ótrúleg. Bardaginn við Spánverjann var t.a.m. einn besti bardagi tæknilega og leikfræðilega sem ég hef séð,“ segir stoltur þjálfarinn að lokum.
Til sölu yndislegur og ljúfur ísl.hvolpur ættbók frá HRFí fylgir honum. Uppl. í síma. 8997614.
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
vf.is
-mundi Nú hitnar í kolunum... nei ég meina ofnunum.
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ • 27. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
VIKAN Á Reykjanesbæingur og fyrrum þátttakandi í Fyndnasti maður Íslands: VEFNUM Drauma leikstjórinn Baltasar Kormákur
Sævar Sævarsson
Það er vínpottur í vinnunni þessa vikuna. Af því tilefni orti ég stutta limru sem lýsir hugarástandi mínu í vínpottsvikum. Biðst afsökunar að íslenskri bragfræði er ekki fylgt í hörgul er varðar stuðla og höfuðstafi... Vínið ég dái og vínið ég þrái í vínpottinn víni ég sái og sái en ég vinn aldrei neitt og mér þykir það leitt en það kemur þó að því ég fái...
Sólný Pálsdóttir:
Elsti kennir yngsta #bræður #hilmirogguðjón #mánahraun #sumartvöþúsundogfimmtán
Erna Lind Teitsdóttir
@elteitsdóttir Úrvalið á matsölustöðum í Reykjanesbæ hlýtur bara að teljast til mannréttindabrots
Unnar Már Unnarson
@UnnarMarU rétt í þessu blikkaði einn mig svaðalega.. Spekúlera hvur anskotinn væri ígangi þar til ég mætti löggunni 20sek seinna. Eitt orð snillingur
Davíð Örn Óskarsson
Day 4-Manflu#staystrong #prayfordavid
r i t t e r f r #viku
„Karekterinn minn heitir Henning og er strákur sem aðalpersónan „deitar“ í myndinni. Ég kynntist handritshöfundi og leikstjóra myndarinnar, Sigurði Antoni Friðþjófssyni, þegar við tókum báðir þátt í fyndnasti maður Íslands árið 2012. Við urðum fljótt goðir vinir og árið 2013 bað hann mig um að leika í sinni fyrstu mynd í fullri lengd,“ segir Njarðvíkingurinn Ævar Már Ágústsson, sem leikur í sjálfstætt framleiddri mynd, Webcam, sem kemur í kvikmyndahús í næstu viku og verður m.a. sýnd í Sambíóum í Reykjanesbæ. Mynd um líf „camgirl“ Myndin fjallar um framhaldsskólastúlkuna Rósalind sem ver mestum sínum tíma í að djamma, flakka á milli stráka og hanga með bestu vinkonu sinni, Agú. Rósalind fækkar fötum fyrir framan vefmyndavél og gerist svokölluð „camgirl“ og söguþráðurinn gengur út á hvers konar áhrif það hefur á hana og sambönd hennar við vini, kærasta og fjölskyldu. Allt þetta breytist þó eftir að hún kynnist strák með gægjuhneigð, en þau kynni verða smám saman
til þess að Rósalind finnur köllun sína í að fækka fötum fyrir framan vefmyndavél í beinni útsendingu á netinu. Anna Hafþórsdóttir, sem margir kannast við úr þáttunum um Tinna og Tóta, fer með hlutverk vefmyndavélastúlkunnar. Langar í krefjandi hlutverk Ævar Már hefur haft áhuga á leiklist síðan hann var u.þ.b. 14 ára gamall en hefur frá því hann man eftir sér haft áhuga á að skemmta fólki. Spurður um reynslu tengdri leiklist segir Ævar Már hana ekki vera mjög mikla. „Ég lék í leikriti í 10. bekk í Njarðvíkurskóla, var svo í jólabarnaleikriti í Frumleikhúsinu árið 2008. Svo hef svo verið aukaleikari í ýmsum þáttum og bíómyndum.
Einnig lék ég , eins og áður sagði, í fyrstu mynd Sigurðar s em var í fullri lengd og hét Ísabella. Sú mynd var sýnd einu sinni í Bíó Paradís.“ Ævar Már segist ekki eiga sér draumahlutverk en hann langar í framtíðinni að takast á við eitthver krefjandi hlutverk. „Draumaleikstjórinn væri held ég klárlega Baltasar Kormákur. Einnig væri ég mikið til í að leika fyrir Baldvin Z og Ólaf Jóhannesson,“ segir Ævar Már að lokum.Myndir: Ævar leikari.
SUMARUTSALA Á VÖLDUM SUMARVÖRUM HEFST FIMMTUDAGINN 9. JÚLÍ
Allt að
50% r u t t á l s af byko.is
auðvelt að versla á byko.is sendum um allt land