Skip to main content

34 tbl 2016 - Fyrri hluti

Page 1

• fimmtudagurinn 1. september 2016 • 34. tölublað • 37. árgangur

64 blaðsíður!

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

MEÐAL EFNIS

VINSÆLIR SNAPPARAR n Hin 24 ára gamla Steinunn Ósk Valsdóttir og flutningabílstjórinn Garðar Viðarsson eru orðnar stjörnur á samfélagsmiðlinum Snapchat. Mikill fjöldi fólks fylgist með þeim í daglega lífinu, Steinunni með tvíburastrákunum sínum eða að farða sig fyrir framan spegilinn heima og Garðari fara hamförum á stóra trukknum hafandi skoðanir á hinu og þessu. // 34-36

MÓTORHJÓLADELLAN n Mikil aukning hefur verið á bifhjólum á Suðurnesjum síðastliðin tíu ár. Árið 2015 voru 905 bifhjól skráð en árið 1995 voru aðeins 102 bifhjól. Meðal bifhjólaklúbba á Suðurnesjum eru Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja, Grindjánar, Sons of Freedom og Lords & Ladies. // 20

n Á myndinni má sjá nágrannana Önnu Margréti Ólafsdóttur, Kristlaugu Sigurðardóttur og Dagnýju Gísladóttur með örlítið brotabrot af þeim munum sem seldir verða á markaðnum. VF-mynd/dagnýhulda.

Fjölbreytt dagskrá á 17. Ljósanóttinni n Sautjánda Ljósanæturhátíðin er hafin í Reykjanesbæ. Dagskráin er afar fjölbreytt að venju þar sem þátttakendur skipta hundruðum sem og fjölbreyttir viðburðir. Tvennir tónleikar störtuðu hátíðinni í gærkvöldi en setning hennar var í morgun, fimmtudag. Að venju eru nokkrir hápunktar í dagskránni en sérstöku dagskrárblaði er dreift með Víkurfréttum þar sem hægt er að sjá hana en einnig á ljosanott.is. Margir viðburðir hefjast í dag, margs konar sýningar og þá eru svokallaðir hjólbörutónleikar í Keflavíkurkirkju í kvöld, svo fátt eitt sé nefnt.

VERÐ ALLTAF KEFLVÍKINGUR

n Keflvíkingurinn Magnús Kjartansson er aðal númer Ljósanætur 2016 og kemur fram að minnsta kosti fjórum sinnum á hinum ýmsu viðburðum hátíðarinnar. Magnús er einn af þekktu poppurum bítlabæjarins og landsins og er höfundur margra þekktra laga sem landsmenn þekkja. Fréttamenn Víkurfrétta hittu Magnús og báðu hann um að rifja nokkur atriði úr sögu þessa rúmalega sextuga bítils og tónlistarmanns. // 26

Að venju verður hreinlega erfitt fyrir fólk að velja út, svo mikið er úrvalið af viðburðum. Markmið hátíðarinnar er að heimamenn séu þátttakendur og það hefur tekist. Einn af óvanalegum en skemmtilegum uppákomum er götumarkaður nokkurra íbúa í gamla bænum í Keflavík á laugardag. Ein þeirra er Kristlaug Sigurðardóttir, íbúi við Norðfjörðsgötu 11. „Ég er að flytja til Reykjavíkur þannig að ég er mikið að rýma til hjá mér,“ segir hún. Á götumarkaðnum verður margt spennandi á boðstólum, svo sem antíkskápar, retro sófasett, borðspil, bækur, plötur, eldhúsáhöld,

boxpúði, útileguhúsgögn, gamlir myndarammar og píluspjöld. „Svo er ég með fullan kassa af gögnum til að nota við undirskriftasafnanir; skrifblokkir og penna, ef fólk vill ganga í hús og safna undirskriftum með eða á móti einhverju,“ segir Kristlaug. Meðal annarra muna á markaðnum verður ritröðin Keflavík í byrjun aldarinnar, líf og saga, fyrsta, annað og þriðja bindi. „Síðast en ekki síst má nefna listaverk af allsberum Jesú að pissa eftir Reyni Katrínarson. Ég get ímyndað mér að það verði barist um það,“ segir hún.

TÍMINN STENDUR Í STAÐ Í HÖFNUM

FÍTON / SÍA

n Hafnir vilja oft verða útundan þegar rætt er um Reykjanesbæ. Í dag eru íbúar Hafna 101 en voru 76 í árslok 2013. Menningarfélagið í Höfnum er tiltölulega nýtt af nálinni og hefur staðið fyrir menningartengdum viðburðum í Höfnum undanfarin misseri. „Þetta er svolítið öðruvísi staður. Það er fínt að fara þennan rúnt á sunnudegi á Ljósanótt enda alltaf gaman að fara út í Hafnir. Þarna voru margir samankomnir sem hafa einhverjar tengingar við Hafnirnar,“ segir Árni Hjartarson íbúi í Höfnum. Hann er sjálfur Keflvíkingur en hefur búið í Höfnum síðustu níu ár. // 40

einföld reiknivél á ebox.is

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Bros kostar ekki neitt n Það er alltaf notaleg stemning á Ráðhúskaffi Reykjanesbæjar hjá Angelu Amaro. Hún þekkir nánast alla sína gesti persónulega og þykir vænt um marga þeirra. Fastagestir eru á öllum aldri og koma margir daglega til þess að sækja í veitingar eða góðan félagsskap. Angela fluttist til Íslands árið 1995 aðeins 21 árs gömul frá heimalandi sínu Portúgal. // 30

Magnaður Maggi Kjartans í þætti vikunnar

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

Sjónvarp Víkurfrétta er einnig í háskerpu á vf.is

Sjónvarp Víkurfrétta • fimmtudagskvöld kl. 21:30 • ÍNN


2

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Vilja ekki fjarskiptamastur Mílu í Grindavík ■■Í ljósi mótmæla íbúa í Grindavík vegna fyrirhugaðrar uppsetningar á 18 metra háu fjarskiptamastri við Víkurbraut 25 þá leggur skipulagsnefnd Grindavíkur til við bæjarstjórn að erindinu verði hafnað. Míla ehf. hafði óskað eftir byggingarleyfi fyrir uppsetningu á 18 metra háu fjarskiptamastri við Víkurbraut 25. Erindið var tekið fyrir á síðasta fundi skipulagsnefndar Grindavíkur. Fyrirhuguð framkvæmd hefur verið grenndarkynnt en á grenndarkynningartíma barst undirskriftalisti frá 33 aðilum í nágrenni Víkurbrautar 25. Með undirskriftalistanum er fyrirhugaðri framkvæmd mótmælt. Það liggur því fyrir að Míla verður að finna mastrinu annan stað.

Framkvæmdir á tveimur stöðum við sjóvarnir á Vatnsleysuströnd

Leggja göngustíg meðfram Sandgerðistjörn ■■Nú er unnið að gerð göngustígs við Sandgerðistjörn. Um er að ræða framkvæmd sem hefur legið lengi fyrir og er styrkt af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Stígurinn liggur með tjarnarbakkanum og er bakkinn hlaðinn úr grjóti. Sandgerðistjörn er vinsæl til fuglaskoðunar og annað dýralíf í tjörninni hefur einnig vakið áhuga. Þannig er skólafólk duglegt að fara að tjörninni og sækja sýni sem síðan eru tekin til skoðunar í skólaferðum í Fræðasetrið í Sandgerði sem staðsett er í göngufæri frá Sandgerðistjörn. VF-mynd:

Eyþór Sæmundsson

■■Vegagerðin hefur sótt um framkvæmdaleyfi til gerðar sjóvarnargarða á tveimur stöðum í Vogum. Sjóvarnirnar verða við Breiðagerðisvík, um 200 m sjóvörn og norðan Marargötu, hækkun og styrking á um 180 m kafla. Framkvæmdin samræmist aðalskipulagi við Breiðagerðisvík á Vatnsleysuströnd. Þar hefur Skipulagsstofnun tekið ákvörðun um að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Fornleifaskráning hefur farið fram á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði og hefur Minjastofnun Íslands verið gerð grein fyrir henni. Norðan Marargötu í Vogum fer fram hækkun og styrking á um 180 m kafla. Framkvæmdin samræmist aðal- og deiliskipulagi og er ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

163 án atvinnu í júlí ■■Alls voru 163 einstaklingar í Reykjanesbæ án atvinnu í júlímánuði. Það er 94 einstaklingum færra en í sama mánuði í fyrra. Heildarfjöldi skráðra atvinnulausra á öllum Suðurnesjum var 221 í júlímánuði, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar.

Ístak undirbýr nú mat á umhverfisáhrifum á áframhaldandi efnistöku í Stapafelli á Reykjanesi. Mat á umhverfisáhrifum er unnið samkvæmt lögum nr. 106/2000 og reglugerð nr. 660/2015, en framkvæmdin er matsskyld samkvæmt tölulið 2.01 í 1. viðauka laganna. Mati á umhverfisáhrifum er ætlað að kanna nánar umhverfisáhrif námuvinnslunnar og umhverfisþætti sem hafa áhrif á námuvinnslu. EFLA verkfræðistofa vinnur að mati á umhverfisáhrifum. Drög að tillögu að matsáætlun hafa nú verið lögð fram til kynningar á heimasíðu EFLU verkfræðistofu, www.efla.is.

Frestur til athugasemda er frá 1. september til 16. september 2016.

Bækurnar munu koma sér vel við móðurmálskennslu nemenda með pólsku að móðurmáli.

Mótorhjólasamtök færa Hjallatúni pólskar bækur að gjöf ■■Mótorhjólasamtökin Unknown Bikers færðu leikskólanum Hjallatúni pólskar bækur að gjöf í síðustu viku. Bækurnar koma sér vel í Hjallatúni þar sem mörg barnanna eru frá Póllandi. Á vef leikskólans kemur fram að það styrki þau í íslensku að læra á sínu tungumáli.

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

Eitt fyri hvað ra sky fjöl- lla ldu na

STI R STÆ ÚÐ Á ÍSB ÐUR SU SJUM NE 5 tegundir af krapi

Allir hafa rétt til að kynna sér drögin að tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Að auglýsingatíma loknum verða drögin, ásamt þeim athugasemdum sem berast, send Skipulagsstofnun til umfjöllunar. Hægt er að koma ábendingum eða athugasemdum við drög að tillögu að matsáætlun til Ólafs Árnasonar hjá EFLU verkfræðistofu eigi síðar en 16. september 2016. Athugasemdir er hægt að senda með tölvupósti á netfangið olafur.arnason@efla.is eða skriflega á heimilisfang EFLU að Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, merkt „ Efnistaka í Stapafelli. Mat á umhverfisáhrifum ”. EFLA VERKFRÆÐISTOFA +354 412 6000

efla@efla.is

www.efla.is

Vanilluís Jarðaberjaís Vanillu-jarðaberja tvistur Gamaldagsís Súkkulaðiís Gamaldags-Súkkulaði tvistur

Verið velkomin í glæsilegu ísbúðina okkar að Iðavöllum 14 FJÖLBREYTT TILBOÐ Á GRILLINU! KÓK MEÐ ÖLLUM TILBOÐUM

Bananaís Karamelluís Banana-karamellu tvistur Yfir 50 tegundir af kurli

20%

TUR ANÆ R S Ó TU LJ LÁT AFS RAPI AF K


Gleðilega Ljósanótt Landsbankinn er aðalstyrktaraðili Ljósanætur, menningar- og fjölskylduhátíðar Reykjanesbæjar. Við óskum Suðurnesjamönnum og öðrum gestum Ljósanætur gleðilegrar hátíðar.

Föstudagur kl. 15:00 – 16:00

Laugardagur kl. 11:00 – 18:00

Bjóðum gesti velkomna í útibú okkar við Krossmóa 4. Harmonikkuleikarinn Margrét Arnardóttir skapar létta og skemmtilega stemmingu, veitingar í boði.

Hoppukastali Sprota verður á hátíðarsvæðinu, Sproti kíkir í heimsókn og heilsar upp á káta krakka kl. 15.00.

J Ó N S S O N & L E ’ M A C KS • J L . I S • S Í A

Við hlökkum til að sjá ykkur. Við hvetjum alla til að kynna sér dagskrá Ljósanætur á www.ljosanott.is.

Landsbankinn Landsbankinn

landsbankinn.islandsbankinn.is

410 4000

410 4000


4

VÍKURFRÉTTIR

Veitt undir ljósunum um hábjartan dag

SNJÖLL ÖPP MAGNÚSAR:

Tinder er fínasta klósettapp

■■Eins og glöggir bæjarbúar í Reykjanesbæ hafa tekið eftir hefur floti makrílveiðibáta verið að veiðum rétt undan landi við Keflavík og Njarðvík síðustu daga. Oft hefur mátt sjá bátana þyrpast saman á einn stað þar sem mestu veiðina er að hafa. Á mánudag voru fimm bátar í einum hnapp undir Berginu. Má segja að þeir hafi verið að veiðum undir Ljósanæturljósunum um hábjartan dag. Ljóskastararnir á Berginu fá að láta ljós sitt skína á laugardagskvöld þegar kveikt verður á lýsingunni á Berginu í 17. sinn. Lýsingin samanstendur af 24 ljóskösturum og án efa eru ljósin á Berginu eitt stærsta umhverfislistaverk landsins. Meðfylgjandi breiðmynd tók Hilmar Bragi af makrílbátunum af Berginu á mánudaginn.

Magnús Einþór Áskelsson er þroskaþjálfi hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilvera hans er þó ekki afmörkuð við starfið heldur hefur hann einnig gaman af íþróttum, ferðalögum innan- og utanlands, njóta samverustunda með fjölskyldunni sinni og matargerð svo nokkuð sé nefnt. Hann deilir hér fimm uppáhalds snjallforritum sínum með lesendum Víkurfrétta. Messenger

Tinder

Spotify

fimmtudagur 1. september 2016

Góð leið til að eiga samskipti við alla nær og fjær.

Fínasta klósettapp. Nota það bara á klósettinu.

Score Hero

Tónlistarveita sem ég nota alls staðar. Hvort sem ég er heima, úti að hjóla eða í vinnunni.

Twitter

Skemmtilegasti samfélagsmiðillinn @maggitoka

sæti

„Fótboltaleikur sem sonurinn náði í en ég ánetjaðist“

Fótboltaleikur sem sonurinn náði í en ég ánetjaðist. Hann virkar þannig að þú býrð til þinn leikmann og spilar með allskonar liðum í Evrópu. Leikurinn gengur út á að skora mörk með alls konar samleik og klárar tímabil. Ég held það séu 21 timabil og er búinn sjálfur með 18.

Hitum upp fyrir Ljósanótt Ragnheiður Elín opnar kosningamiðstöð að Hafnargötu 31 i Reykjanesbæ, fimmtudaginn 1. september kl. 16.30. Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir

Hvalur læðist aftan að veiðimönnum ■■Stórar makríltorfur hafa verið við Keflavíkurhöfn síðustu daga og vikur. Makrílveiðiflotinn hefur allur verið á sama blettinum og veiðimenn hafa staðið á bryggjunni og kastað á torfurnar. Um helgina var flotinn allur út af bryggjuendanum í Keflavík, nokkrir veiðimenn stóðu á bryggjunni við veiðar og á sama tíma læddist stórhveli aftan að veiðimönnunum til að ná sér í kraftmikinn hádegisverð. Einar Guðberg Gunnarsson hefur góða yfirsýn yfir allt sem gerist við Keflavíkurhöfn af efstu hæð við Pósthússtrætið. Hann náði þessum myndum af hvalnum og veiðimönnum á bryggjunni og Páll Ketilsson smellti af bátum við veiðar í sumarblíðu á sunnudegi.


FRÍAR SJÓNMÆLINGAR KAUPAUKI

Með öllum margskiptum glerjum fylgir annað par FRÍTT með í sama styrkleika.

Tilvalið sem sólgleraugu eða varagleraugu.

Opið:

1. sept. 2. sept 3. sept

kl. 09 til 22 kl. 09 til 18 kl. 11 til 18

SÍMI 421 3811 – KEFLAVÍK


6

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Alþjóðaforsetinn með Lionsfólki um borð í Hólmsteini GK á Garðskaga.

RITSTJÓRNARPISTILL Páll Ketilsson

SAMEININGARAFL SUÐURNESJAMANNA Það er óhætt að segja að það hafi hýrnað yfir okkur Suðurnesjamönnum á undanförnum árum. Nú erum við í svaka stuði, allt í vaðandi sveiflu og bros á flestum andlitum. Enda ekki ástæða til annars. Fasteignir hækka og fljúga út og næg atvinna í boði. Svo er komin Ljósanótt, sú sautjánda í röð. Ljósanótt er magnað sameiningarafl og kallar á flest það besta hjá Suðurnesjamönnum, að minnsta kosti einu sinni á ári. Á Ljósanótt eru íbúar Reykjanesbæjar í essinu sínu. Í þessu risastóra blaði vikunnar hjá VF er hægt að sjá brot af mörgu því besta sem í boði verður á Ljósanótt. Hundruð bæjarbúa verða í mörgum skemmtilegum hlutverkum, sýnandi myndverk og margs konar list, flytjandi tónlist eða eitthvað annað skemmtilegt eins og að bjóða kjötsúpu. Pæliði í því. Axel og hans fólk í Skólamat bjóða þúsundum Ljósanæturgesta kjötsúpu og bæjarstjórnarbandið spilar á bryggjuballi á sama tíma. Ungt fólk í gamla bæ Keflavíkur býður á heimatónleika og svo tekur við mögnuð dagskrá á laugardegi með árgangagöngu og Magnús okkar Kjartansson verður aðal númerið á stóra sviðinu um kvöldið. Við á VF hittum Magga í vikunni og fórum smá rölt með honum um bæinn og fengum kappann til að segja okkur frá nokkrum áhugaverðum köflum í lífi hans en kappinn fagnar 65 ára afmæli á þessu ári. Hann mundi til dæmis eftir að hafa verið í partýi í húsi sem hann fæddist í við Ásabraut í Keflavík eftir ball í Stapa. Svo skemmtilega vill til að tvö bekkjarsystkin Magga, myndlistarkonan Fríða Rögvalds og hagfræðingurinn og ljósmyndarinn Stefán Ólafsson verða í öðruvísi partýi í Gömlu Búð við Duus-húsin og sýna þar myndir sínar. Valdimar, nýjasta stórstjarna Suðurnesjamanna, setur punktinn yfir i-ið í kirkjunni í Höfnum á sunnudag. Svona er hægt að telja upp mjög lengi áhugaverð atriði á Ljósanótt 2016. Við á Víkurfréttum ætlum að vera á ferðinni og spreyta okkur á beinum útsendingum á vf.is, á Youtube og Facebook. Við erum að fikra okkur áfram í tækninni þannig að endilega stillið á vf.is þar sem þið getið fylgst með okkur færa ykkur Ljósanóttina í símann, spjaldtölvuna eða bara í tölvuna heima. Við sýnum ykkur svo bland í poka í sjónvarpsþætti næstu viku. Gleðilega Ljósanótt! Páll Ketilsson ritstjóri.

Alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar

á ferð um Suðurnes ●●Kynnti sér starf Lionsklúbba í Sandgerði, Garði og Reykjanesbæ

Bob Corlew, alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar var staddur hér á landi í þeim tilgangi að hitta Lionsfélaga alls staðar af landinu og kynna sér frá fyrstu hendi það starf sem fram hefur farið á Íslandi undir merkjum hreyfingarinnar. Meðal annars hitti hann félaga í Lionsklúbbum á Suðurnesjum. Ferðalag alþjóðaforsetans hófst í Sandgerði þar sem hann kynnti sér starfsemi Lionsklúbbs Sandgerðis í Efra-Sandgerði. Frá Sandgerði var forsetanum ekið í forláta fornbíl, árgerð 1948, út á Garðskaga þar sem Lionsfólk í Garði tók á móti honum og föruneyti. Á Garðskaga var Bob boðið um borð í Hólmstein GK þar sem m.a. var undirritaður

samningur milli Linonshreyfingarinnar á Íslandi og Öskju. Askja leggur Lions til bifreið sem notuð verður í vetur í kynningarstarfi á Lions. Lionshreyfingin fagnar einmitt 100 ára afmæli á næsta ári. Frá Garðskaga var farið á slökkvistöðina í Keflavík og þaðan í paradís Lionsmanna í hlíðum Grænás í Njarðvík þar sem gróðursettar voru trjáplöntur í gróðurvin. Með í för var einnig Guðrún Björt Yngvadóttir sem nýverið var kjörin annar varaforseti hreyfingarinnar, fyrst kvenna. Á næsta ári gegnir hún hlutverki fyrsta varaforseta og þar á eftir tekur hún við embætti alþjóðaforseta.

Pálmi Hannesson aldarafmælisstjóri Lions tók á móti Bob Corlew alþjóðaforseta Lionshreyfingarinnar á Garðskaga en þangað kom forsetinn á þessum forláta Dodge árgerð 1948

Jenný Kamilla Harðardóttir er fyrsta konan til að ganga í Lionshreyfinguna á Norðurlöndum. Hún er í Lionsklúbbnum Garði. Hér er hún ásamt Dianne Corlew eiginkonu alþjóðaforseta Lionshreyfingarinnar og Guðrúnu Björt Yngvadóttur sem er 2. varaforseti Lionshreyfingarinnar. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson Frá gróðursetningu í Grænási. Mynd: Dianne Corlew

Askja leggur Lions á Íslandi til Kia Rio til að nota á ferðalögum um Ísland þar sem Lions verður kynnt á 100. afmælisárinu.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.


PIPAR\TBWA · SÍA · 152419

Ljósa-

Góða nótt! Starfsfólk Kadeco óskar íbúum Reykjanesbæjar og gestum ánægjulegrar Ljósanætur. Góða skemmtun!

REYKJAVÍK

REYKJANESBÆR

ÁSBRÚ

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.asbru.is


markhönnun ehf

Allt fyrir þig og þína -30% REYKT ÝSUFLÖK BEINLAUS M. ROÐI ÁÐUR: 2.545 KR/KG KR KG

1.782

NETTÓ KJÚKLINGABRINGUR ÁÐUR: 2.098 KR/KG KR KG

1.888

-23%

-25% BBQ KJÚKLINGALEGGIR ÁÐUR: 1.068 KR/KG KR KG

NAUTAHAKK - 500 G 100% HÁGÆÐA NAUTAKJÖT ÁÐUR: 898 KR/PK KR PK

691

PÍTUBUFF 6 X 60 G M. BRAUÐI ÁÐUR: 1.598 KR/PK KR PK

897

1.199

-23%

NÝTT DR. PEPPER - 33 CL ÁÐUR: 129 KR/STK KR STK

-33%

99

KIT KAT - 4 X 45 G ÁÐUR: 279 KR/PK KR PK

259

GALAXY MINSTRELS - 105 G ÁÐUR: 310 KR/PK KR PK

279

-20%

EASY UPPÞVOTTALÖGUR ÁÐUR: 249 KR/PK KR PK

199

BUTTERKIST TOFFE POPCORN - 25 G ÁÐUR: 199 KR/PK KR PK

TOPPUR, EPLA - 2 L ÁÐUR: 279 KR/STK KR STK

195

179

-33% FINISH CLASSIC POWERBALL - 10 STK ÁÐUR: 298 KR/PK KR PK

199

GREEN SHIELD HREINSIKLÚTAR - 10 STK ÁÐUR: 295 KR/PK KR PK

198

COCA COLA ZERO - 2 L ÁÐUR: 229 KR/STK KR STK

195

Tilboðin gilda 1. – 4. sept. 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

-2


Coo- Coo klikkað verð!

-60%

-20% LAMBALUNDIR, FROSNAR ÁÐUR: 5.298 KR/KG KR KG

4.238

-30%

DANPO KJÚKLINGALUNDIR FROSNAR - 700 G ÁÐUR: 1.689 KR/PK KR PK

676

-25%

ÆRBÓGUR, ÁN SKANKA 2 STK SAMAN, FROSNIR ÁÐUR: 1.398 KR/KG KR KG

979

JÖT

KOLAKRYDDAÐ KINDAFILLE ÁÐUR: 3.998 KR/KG KR KG

-20%

NAUTALUNDIR NÝSJÁLENSKAR ÁÐUR: 3.998 KR/KG KR KG

3.598

-30%

2.999

-30%

RÚGBRAUÐ, MINNI SYKUR ÁÐUR: 398 KR/PK KR PK

279

LAMBA MJAÐMASTEIK ÚRBEINUÐ, FROSIN ÁÐUR: 2.998 KR/KG KR KG

2.398

PRÓTEINBRAUÐ, LÁGKOLVETNA ÁÐUR: 549 KR/PK KR PK

384

-30%

%

HAFRABRAUÐ, LÍFRÆNT ÁÐUR: 549 KR/PK KR PK

BOLANDS FIG ROOLS - 200 G ÁÐUR: 189 KR/PK KR PK

384

159

2L TK

COOP KANILSNÚÐAR 4 STK - 340 G ÁÐUR: 359 KR/PK KR PK

298

COOP VÍNARBRAUÐ 4 STK - 340 G ÁÐUR: 359 KR/PK KR PK

GERLAUST BRAUÐ - 400 G ÁÐUR: 398 KR/PK KR PK

338

390

Allt í boostið

298

NICE ‘N EASY FROSNIR ÁVEXTIR ANANAS - 350 G GRANDIOSA PIZZUR BLÁBER - 250 G MANGÓ - 350 G 4 TEGUNDIR ÁÐUR: 789 KR/STK ÁÐUR: 299 KR/PK KR KR STK PK

599

HAFRABRAUÐ - 400 G ÁÐUR: 459 KR/PK KR PK

199

-50% RAUÐ VÍNBER FRÁ USA ÁÐUR: 998 KR/KG KR KG

459

ALLETIDERS JARÐARBER - 400 G ÁÐUR: 279 KR/PK KR PK

199

www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss


10

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

LÍTUR ALLTAF Á SIG SEM KEFLVÍKING ●●Stefán Ólafsson heldur sýningu í Gömlu búð ●●Sýnir með bekkjarsystur sinni frá fyrri tíð Helstu viðfangsefni prófessorsins Stefáns Ólafssonar á fullorðinsárum hafa verið hagfræðin og þjóðfélagsfræðin. Hann segir þær þó frekar þurrar greinar og alvörugefnar. Því sé gott að eiga athvarf í einhverri listsköpun sem áhugamaður, bæði til að auðga tilveruna og víkka sjóndeildarhringinn. „Slíkt er mér mjög mikilvægt og vonandi get ég aukið þann þátt í framtíðinni,“ segir Stefán sem heldur sýningu á ljósmyndaverkum sínum í Gömlu búð við Duus húsin á Ljósanótt. Hann sýnir með skólasystur sinni, Fríðu Rögnvaldsdóttur. Sýningin ber yfirskriftina Fólk og landslag og að sögn Stefáns er Fríða meira með myndir af fólki á sýningunni en hann af náttúrunni og stundum af furðuverum í landslaginu. Í verkum sínum reynir hann sérstaklega að draga fram fegurð og dulúð í náttúrunni. „Skemmtilegast finnst mér þegar ljósmyndir nálgast málverkið að hluta. Stundum beiti ég myndvinnsluforritum til að auka slík áhrif. Þá er ég líka mjög hrifinn af myndrænum svipum, andlitum eða furðuverum, í klettum og hrauni, sem ýta oft undir dulúð í myndunum.“

vík Bítlaáranna. Þetta var tíminn sem færði okkur Hljóma og heilmikla grósku á svæðinu. Mjög skemmtilegur og örvandi tími mikilla breytinga. Það gerði það að verkum að þó að ég hafi búið lengi erlendis og síðan í Reykjavík þá lít ég enn alltaf á mig sem Keflvíking,“ segir hann. Vinahópur Stefáns hefur alla tíð haldið saman og kallar sig Átthagafélag Keflavíkur. Þá búa Oddný dóttir hans og fjölskylda í Keflavík og segir hann tengslin við gamla bæinn því enn mjög sterk. Í listinni hefur Stefán leitast við að læra af öðrum, bæði af lestri bóka, sýningum og af internetinu og segir af nógu að taka. Mikilvægast sé þó að prófa sig áfram og gera tilraunir. „Ef áhuginn er nógu sterkur þá getur maður komist langt með því.“ Á skólaárunum í Keflavík stundaði hann ljósmyndun en lagði það síðan af en tók þráðinn upp aftur nokkrum árum síðar og ver nú stærstum hluta tómstunda sinna í ljósmyndaleiðangra og ýmsa tilraunastarfsemi með myndir. „Þegar ég var að alast upp í Keflavík þá var ég mikið í tónlist, til dæmis var ég í tónlistarnámi hjá Herbert Hriberschek í lúðrasveit drengja, þar sem ég var samhliða félaga mínum, tónlistarfrömuðinum Magnúsi Kjartanssyni. Síðan var ég í hljómsveitinni Skuggum með öðrum félögum mínum. Við spil-

uðum talsvert á skólaböllum og víðar í um þrjú ár á unglingsárunum.“

Stefán Ólafsson við með nokkrar af myndum sínum í baksýn.

Á skólaárunum tók Stefán, ásamt nokkrum strákum þátt í ljósmyndasýningu í Keflavík og hjálpaði Heimir Stígsson ljósmyndari þeim við uppsetninguna. „Hann stækkaði myndirnar fyrir okkur, en þær voru allar í svart-hvítu. Hann sagði að við værum „listamenn”, hvort sem hann meinti það nú eða ekki.“ Sýning Stefáns nú um Ljósanótt er sú fyrsta síðan þá og kveðst hann mjög stoltur af því að fá að sýna með skólasystur sinni, myndlistarkonunni Fríðu Rögnvalds. Stefán verður í Gömlu búð yfir sýningardagana og vonast til að hitta sem flesta, ekki síst samferðafólk frá Keflavíkurárunum.

SKÓLAMATUR

Vaxandi fyrirtæki

Stefán ólst upp í Keflavík og bjó þar uns hans fór til háskólanáms í útlöndum. „Á uppvaxtarárunum var ég í góðum félagsskap og við lifðum mjög skapandi og fjöruga tíma í Kefla-

Ef áhuginn er nógu sterkur þá getur maður komist langt með því

Bekkjarsystkin frá fyrri tíð, þau Stefán Ólafsson og Fríða Rögnvaldsdóttir í Gömlu búð. VF-mynd/pket.

SKÓLAMATARKJÖTSÚPAN!

Kjötsúpan er á föstudaginn frá kl. 19 til 21

Skólamataralestin

fer frá Iðavöllum kl. 18.15. Sími 420 2500 I www.skolamatur.is

Hollt, gott og heimilislegt


Góða skemmtun á Ljósanótt! Bestu kveðjur Starfsfólk TM Reykjanesbæ

TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN // Hafnargötu 31 // 230 Reykjanesbæ Sími 515 2620 // tm@tm.is // www.tm.is


12

VÍKURFRÉTTIR

ELDRI FS-INGUR ■■Í haust mun Fjölbrautaskóli Suðurnesja fagna 40 ára afmæli sínu og til stendur að halda uppá daginn 24. september næstkomandi. Fjölbrautaskóli Suðurnesja, eða FS, hefur í gegnum árin boðið uppá fjölbreyttar námslínur og því alið af sér einstaklinga sem sinna hinum ýmsu störfum atvinnulífsins, bæði hérlendis og erlendis. Því er vel við hæfi að leita uppi gamla FS-inga og forvitnast um hvað á daga þeirra hefur drifið. Sumir þeirra luku stúdensprófi frá skólanum, aðrir luku iðnmenntun en enn aðrir komu við í skemmri tíma. Fram að afmælinu ætlum við að leita uppi gamla FS-inga.

fimmtudagur 1. september 2016

Afþreying:

40 ÁRA

Fyrsta prestsverkið var við busavígslu í FS augnablik í minningunni, auðvitað eitt af mörgum. Seinna gerðist ég nákvæmlega sama meinhornið gagnvart öðrum nýnemum og hef stundum grínast með það að mitt fyrsta prestsverk hafi verið þegar ég þjónaði sem æðstiprestur við busavígslu í FS. Allt átti þetta að vera til gamans gert, að sjálfsögðu, en með tímanum hef ég orðið minna hrifinn af þessu fyrirbæri sem busavígslurnar eru og tel það betur við hæfi að bjóða nýnema velkomna á fallegan hátt. Svona er maður orðinn gamall og leiðinlegur. Rökin eru þó að þarna eru einfaldlega viðkvæmar sálir innan um og svo vantar stundum lítið upp á að leikurinn fari úr böndunum.

Hvenær varstu við nám í FS? Ég var nemandi í FS frá 1982-1988 með hléi. Hvað hefurðu verið að gera síðan þú útskrifaðist úr FS? Síðan ég útskrifaðist úr FS hef ég fengist við eitt og annað en undanfarin 20 ár hef ég þjónað sem prestur og þar af 14 ár sem sóknarprestur í Lindakirkju í Kópavogi. Fljótlega eftir að stúdentshúfan prýddi kollinn hóf ég nám í Guðfræðideild Háskóla Íslands. Hvernig fannst þér FS búa þig undir það nám sem þú fórst í? Ég get ekki sagt að nám í Fjölbrautaskóla Suðurnesja hafi verið undirbúningur að guðfræðinámi nema þá með óbeinum hætti enda varla hægt að ætlast til þess. Aftur á móti lagði vera mín í FS góðan grunn að ótal mörgu sem ég hef fengist við síðan. Ég var mjög virkur í félagslífinu í FS og skipti mér af ýmsu sem fór þar fram, meðal annars skólablöðum, skólaböllum, skipulagningu á viðburðum og var meðal annars formaður NFS í einn vetur. Hvernig skóli er FS í þínum augum? Í minningunni er FS mjög þægilegur og opinn skóli með fjölbreytt námstækifæri, meira að segja fyrir öllum þessum árum síðan ég var þar í námi. Þetta var áhyggjulaus, stundum fullkomlega ábyrgðarlaus og gríðarlega skemmtilegur tími. Framan af náminu virðist ég hafa litið svo á að ég væri í framhaldsskóla eingöngu til að skemmta mér og öðrum. Einkunnabókin mín ber mér til dæmis ekki vitni um góða mætingu. Ég lenti stundum í vandræðum á því sviði en tekið var á þeim málum af merkilega mikilli mildi. Ég fékk að taka öll próf en tók

Guðmundur Karl Brynjarsson að sjálfsögðu skellinn í frádregnum einingum og slökum einkunnum, eins og við var að búast. Viltu deila með okkur eftirminnilegum minningum úr gamla skólanum þínum? FS árin eru endalaus uppspretta minninga sem ég er stöðugt að rifja upp og monta mig af. Þetta var gríðarlega mikill mótunartími hjá mér eins og hjá flestum krökkum á þessum aldri. Ég veit ekki hvort það fellur öllum í geð en ég get ekki að því gert að þegar ég er beðinn að rifja upp eftirminnilegar minningar koma busavígslur sterkt upp í hugann. Sennilega er það vegna þess að ég upplifði hana sem talsverða manndómsvígslu sem nýnemi. Ég var einn þeirra sem lenti af einhverjum ástæðum á svörtum lista og fékk að finna rækilega fyrir því. Þetta var svona „make it or break it“

LJÓSANÆTURTILBOÐ

TÍSKUSÝNING LAUGARDAGINN KL. 16:00.

Ég á mjög erfitt með að gera upp á milli en ég verð að gefa þeim kennara hrós sem sparkaði (óvart held ég) í rassinn á mér þannig að ég hrökk almennilega í gang í náminu. Það er hann Magnús Ó. Ingvarsson, Mói stærðfræðikennari. Ég var hjá honum í stærðfræðiáfanga sem ég sótti illa og þegar ég loksins lét sjá mig í tíma settist hann fyrir framan mig og spurði hvort ekki væri komið nóg. Viltu ekki bara fara að hætta þessu?, spurði hann. Við þetta hljóp í mig reiðiblandaður kraftur sem varð til þess að það varð alger umsnúningur á mínu námi við FS eftir þetta. Bæði í stærðfræði og öðrum fögum. Uppáhalds náttúruperla á Suðurnesjum? Fjaran við Garðskagavita. Það er einfaldlega vegna þess að ég rúntaði svo oft þangað í gamla daga, stoppaði bílinn, gekk að gamla vitanum og teygaði að mér þarablandaðan sjávarilminn.

GETUR EKKI LAGT FRÁ SÉR SÁLFRÆÐIBÓK Valgeir Elís Marteinsson er 28 ára gamall Sandgerðingur búsettur í Keflavík. Hann starfar sem kaffibarþjónn á Cafe Petite. Valgeir er að byrja sína fyrstu önn í sálfræði við Háskóla Íslands í september. Aðspurður af hverju hann valdi sálfræði segist hann vilja vita af hverju hausinn á fólki virkar eins og hann gerir og vill skilja fólk betur. Hann er orðinn spenntur fyrir náminu og er strax byrjaður að lesa námsefnið af miklum áhuga. Honum finnst gaman að gefa til baka til samfélagsins og hefur verið sjálfboðaliði hjá Fjölskylduhjálp síðustu tvö jól. Bækur:

Ég er núna að lesa bók sem heitir Ertu viss? sem er námsbók fyrir sálfræði. Mjög áhugaverð bók sem fjallar um skynsemi, hjátrú og ranghugmyndir fólks. Ég ákvað að byrja að lesa hana áður en skólinn myndi byrja til að létta undir álagi yfir önnina en svo er bókin svo áhugaverð að ég hef varla getað lagt hana frá mér. Þessi bók er tilbreyting frá síðustu bók sem ég las sem var skáldsagan Salka Valka eftir Halldór Laxnes. Hún var furðulega góð. Sýndi hvernig lífið var á þeim tíma sem bókin var skrifuð, stéttarskiptinguna og mikið um pólitík í henni. Mæli með henni.

Plötur:

Ég hlusta mikið á Tracy Chapman, BB King og bara allt sem er gamalt og gott. Lagið sem ég er með á heilanum núna er Sail Away með David Gray sem er klassík frá tíunda áratugnum. Ég hlusta mest á gamla þægilega tón-

list en hlusta líka alveg á raftónist, en mér finnst eins og tónlist eigi að hafa einhverja sál sem finnst best í gömlum góðum lögum. Ég verð samt að viðurkenna að Justin Bieber er „guilty pleasure“ hjá mér eins og hjá svo mörgum öðrum.

Sjónvarpsþáttur:

Uppáhaldsþátturinn minn þessa dagana er Queen of the South. Þetta er bandarísk drama þáttaröð sem fjallar um konu sem lendir í ánauð fíkniefnabaróns. Meira segi ég ekki til að eyðileggja ekki söguþráðinn fyrir fólki. Game of Thrones, Breaking Bad og Shameless eru ofarlega á topplistanum mínum. Það er samt bandaríska Shameless sem ég horfi á, ég reyndi að horfa á bresku útgáfuna en ég gat það ekki, fannst það svo gervilegt því ég var búinn að sjá hina þættina. Ég hef rosalega gaman af Sci-Fi þáttumi. Ég er nýbúinn að horfa á Stranger Things í einni syrpu. Þeir eru geðveikir.

20%

AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM

OPNUNARTÍMI : MIÐVIKUDAG TIL LAUGADAGS FRÁ KL. 10:00 - 22:00. SUNNUDAG FRÁ KL.13:00 - 18:00.

Stórir keramik skúlptúrar ■■Sýningin Mín eigin jörð verður opnuð í Gryfjunni í Duus Safnahúsum á vegum Listasafns Reykjanesbæjar á Ljósanótt í dag, fimmtudag klukkan 18:00. Þar er á ferðinni listakonan Íris Rós Söring með stóra keramik skúlptúra og nokkra minni „mixed media“ gripi. Einnig verður sýnt myndband af vinnslu listgripanna. Íris lærði keramik og „mixed media“ í Arhus Kunstakademi. Þá lærði hún einnig útlitshönnun í Kaupmannahöfn. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði hér heima og erlendis, meðal annars í fjölda sýninga á vegum Handverks og hönnunar og setið þar í valnefnd. Þetta er fyrsta einkasýning listakonunnar og mun sýningin standa til 30. október næstkomandi.


HS Orka lýsir upp Ljósanótt

Stórkostlegt sjónarspil Flugeldasýningin á Ljósanótt er án alls vafa hápunktur hinnar árlegu menningarog fjölskylduhátíðar í Reykjanesbæ. Fimmta árið í röð kemur HS Orka að flugeldasýningunni sem undir styrkri stjórn Björgunarsveitar Suðurnesja er stórkostlegt sjónarspil. HS Orka óskar íbúum Reykjanesbæjar og gestum þeirra til hamingju með Ljósanótt 2016.

www.hsorka.is


14

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

ÞETTA VERÐUR ALLS EKKI DANNAÐ

Þremenningarnir Elmar, Arnór og Kjartan. VF-mynd/dagnýg.

●●Hjólbörutónleikar í Keflavíkurkirkju. ●●Arnór, Elmar Þór og Kjartan Már bjóða 100 óskalög

Hljólbörutónleikarnir sem slógu í gegn á síðustu Ljósanótt verða endurteknir í Keflavíkurkirkju í ár en þar munu gleðigjafarnir Arnór B. Vilbergsson, Elmar Þór Hauksson og Kjartan Már Kjartansson bregða á leik og taka við óskalögum tónleikagesta. Flutt verða lög af ríflega 100 laga lista samkvæmt óskum tónleikagesta og má því segja að efnisskráin verði til á staðnum. Hvert lag hefur númer og sá sem galar hæst getur átt von á því að fá lagið sitt flutt.

Yfirleitt eru tónleikar í kirkjum býsna dannað fyrirbæri, en þessir voru það ekki

Að sögn Arnórs sem er organisti í Keflavíkurkirkju komu hjólbörutónleikarnir í fyrra mikið á óvart. „Þeir tókust gríðarlega vel og var kirkjan yfirfull mjög snemma. Stemmningin var skemmtileg en það má segja að ákveðin spenna og ánægja hafi einkennt viðburðinn. Yfirleitt eru tónleikar í kirkjum býsna dannað fyrirbæri, en þessir voru það ekki,“ segir hann og hlær. „Fólk gerði hvað sem var til að fá sitt lag leikið og virtist vera vel með á nótunum um hvað málið snérist. Ef þú ekki lætur í þér heyra hvaða lag þú vilt, færðu að öllum líkindum ekki að

heyra það. Það eru jú, vel yfir 100 lög á listanum.“ En er ekki erfitt að læra 100 lög? „Nei alls ekki, 100 lög er ekki mikið,“ segir Elmar Þór söngvari öruggur í fasi en það er ljóst að slíkt er ekki á allra færi og þarf hann að bregða sér í ýmsar söngstellingar enda lögin af ýmsum toga s.s. popplög, sálmar og óperuaríur. „Það var voðalega gaman á tónleikunum í fyrra og margir ágengir að koma sínum lögum að en við vissum ekki hvernig fólk myndi taka þessum tónleikum. Það kom svoldið á óvart hvaða lög voru valin, til dæmis var ekkert af því sem ég hélt að yrði vinsælast valið. En það er nú það sem er svo skemmtilegt við þessa tónleika, það eru tónleikagestir sem ráða.” Að sögn Arnórs eru þeir búnir að uppfæra lagalistann og hjólbörurnar. „Við verðum að þessu sinni með 100kg 801 millarco börur.“ Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 fimmtudaginn 1. september og er miðaverð kr. 1500. Miðasala verður við innganginn.

Það var voðalega gaman á tónleikunum í fyrra og margir ágengir að koma sínum lögum að

Apótekarinn opnar að Fitjum! Verið hjartanlega velkomin í nýtt apótek að Fitjum. Glæsileg opnunartilboð, blöðrur og sápukúlur fyrir öll börn. Hlökkum til að sjá ykkur!

20%

20% afsláttur af barnavörum, snyrtivörum, sokkabuxum og vítamínum afsláttur gildir 1.– 4. september 2016.

Opið fyrir þig

Mán–fim 10.30–18.30 fös.10.30–19 lau. 11–15

www.apotekarinn.is Sími: 421 3200

- lægra verð


1Ís0le 0%

1kg

nskt

ungnautakjöt

200kr

verðlækkun pr.

kg

1.698 kr. kg

498

Íslandsnaut Ungnautahakk Verð áður 1898 kr. kg

Danpo Kjúklingur Danskur, heill, frosinn

498

90g

kr. kg

kr. 1 kg

prótein

GOTT VERÐ Í BÓNUS

Eggjahvítur 1 kg

Íslenskt

Grísakjöt

1.098 kr. pk. makkað s ú þ r u f e H skt

hkitmsúnke kulaði með

598 kr. kg

Ali Grísabógur Ferskur

NÝTT Í BÓNUS

Bónus Réttir 4 teg. - Verð áður 1.298 kr.

Dök ramellu Stökkriákva salti? og sj ar

0nm 54 akka um íp

298 kr. 100 g

395

Himneskt Súkkulaði Lífrænt, 100 g, 2 teg.

Hámark Próteindrykkur Hunangsmelónubragð, 3x250 ml

kr. 3x250 ml

498 kr. 200 g

Grana Padano Ítalskur ostur, 200 g Verð áður 579 kr.

998 kr. pk.

Bónus Massi WC pappír 9 rúllur, 500 blöð á rúllu

Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 4. september eða meðan birgðir endast


16

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

VIÐBURÐIR FJÖLBREYTT BARNADAGSKRÁ Á LJÓSANÓTT Lína langsokkur, leikhópurinn Lotta, Leikfangasafn, Álfabækur, Dekkjakeppnin, skrímslalæti, söngur, sýningar og dans fyrir börnin á Ljósanótt. Kynntu þér dagskrána á ljosanott.is. Minnum á súpertilboð Sprell til Suðurnesjamanna í leiktæki á hátíðarsvæði í dag, fimmtudag, 40% afsláttur. Frítt í Hoppukastalaland við Duustorg á laugardag. OPIÐ FYRIR NÝJAR UMSÓKNIR Í BARNAKÓRINN Tónlistarskóli Reykjanesbæjar starfrækir barnakór fyrir börn á aldrinum 9 – 12 ára. Umsóknarfrestur er til og með 7. september nk. Nýjir umsækjendur verða teknir í raddprófun fyrir inntöku. Sótt er um í Tónlistarskólanum, Hjallavegi 2. Nánari upplýsingar á vef skólans, http://tonlistarskoli.reykjanesbaer.is. OPINN DANSTÍMI Á LÉTTUM FÖSTUDEGI Opinn danstími á Léttum föstudegi 2. september kl. 14:00. Allir hjartanlega velkomnir. ÁLFABÆKUR Í BÓKASAFNI REYKJANESBÆAR GARASON (Guðlaugur Arason) sýnir myndverkin sín Álfabækur í nýuppgerðri og glæsilegri Átthagastofu í Bókasafni Reykjanesbæjar fimmtudaginn 1. september klukkan 17. Allir hjartanlega velkomnir.

Framtíðarminni í Listasafni Reykjanesbæjar

Í moldinni býr saga ●●Inga Þórey Jóhannsdóttir sýningarstjóri

LAUS STÖRF FRÆÐSLUSVIÐ

Dagforeldrar óskast

Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.

BÁTAKERRUR Reykjaneshöfn áréttar að óheimilt er að geyma bátakerrur, með eða án báta, á opnum svæðum hafnarinnar nema á skilgreindu uppsáturssvæði hennar. Reykjaneshöfn mun á næstu dögum fjarlægja, á kostnað eigenda, bátakerrur af hafnarsvæði sem eru utan uppsátursvæðis og verður þeim kerrum fyrirkomið sem ekki verður vitjað um fyrir 30. september nk. Nánari upplýsingar veitir Reykjaneshöfn í síma 420-3224. Hafnarstjóri Reykjaneshafnar.

Sýningin Framtíðarminni opnar í Listasafni Reykjanesbæjar á Ljósanótt en um er að ræða samsýningu fjögurra listamanna, þeirra Doddu Maggýjar, Elsu Dórotheu Gísladóttur, Ingarafns Steinarssonar og Kristins Más Pálmasonar. Tengingar við ræktun, plöntur, kerfi og tíma eru áberandi í listaverkum listamannanna en allir hafa þeir á einhverju skeiði lífs síns búið á Suðurnesjum. Útkoman og miðlarnir sem þau vinna með eru þó afar ólík en á sýningunni verða m.a. málverk, teikningar, gróðurinnsetning og vídeóverk. Sýningarstjórinn er Inga Þórey Jóhannsdóttir og segir hún sýninguna fjalla um jarðveg, ræktun og kerfi. „Ég veit ekki hvort þetta orð „framtíðarminni“ er til og ef það er til, í hvaða skyni það er notað en mér fannst þetta heiti geta átt við þessa sýningu og hugmyndir mínar tengdar henni. Í orðinu búa þrír mismunandi tímar þ.e. fortíð, nútíð og framtíð. Náttúran býr oftast yfir þessu þrennu. Í moldinni býr t.d. „saga“ og þó að ekkert vaxi í henni akkúrat núna þá býr hún yfir framtíð og möguleikum um vöxt.“ Hvernig varð þessi sýning til og hvernig völduð þið listamenn til þátttöku? „Þessar pælingar urðu til í lok síðasta árs, eftir að búið var að velja listamennina. Þeim var boðið að sýna vegna þess að öll hafa þau á einhverju skeiði búið hér á Suðurnesjum en í Listasafni Reykjanesbæjar hefur skapast sú hefð að bjóða heimamönnum að sýna í safninu á Ljósanótt. Listamennirnir hafa allir einhverjar tengingu við ræktun, plöntur, kerfi og tíma

þó að miðlarnir sem þau vinna með séu afar ólíkir og útkoman eftir því. Á sýningunni verða teikningar eftir Ingirafn Steinarsson. Hann hefur í verkum sínum tengt lífræn form úr plöntu- og dýraríkinu og túlkað þau á margvíslegan hátt. Hann fjallar gjarnan um mismunandi vitundarstig, meðvitund og undirvitund og vinnur á mörkum þess skáldaða og raunverulega. Dodda Maggý sýnir vídeó/hljóð verk en það má kannski segja að hún vinni svolítið eins og vísindamaður sem kryfur viðfang sitt. Hún kryfur sjónrænt efni í einingar, skeytir því aftur saman og endurspeglar útkomuna með vídeó og hljóðverki. Í málverkum Kristins Más Pálmasonar skynjar maður ákveðnar tímatengingar forneskju og samtíma. Verk Kristins minna á geómetrískar dagbókarfærslur þar sem unnið er með tákn, sem sum hver vísa langt aftur í fortíð, til tíma þegar táknin voru nátengd jörðinni og hlutbundnu hversdagslífi mannsins. Þessi tákn vísa

líka í hversdagsheim samtímans, þar sem náttúrutengingin er að mestu glötuð. Í verkum Elsu Dórótheu Gísladóttur kemur fram mikill áhugi á heildstæðri ræktun, sérstaklega því sem kallast á ensku Biodynamic Agriculture, sem má rekja til Rudolfs Steiner. Það er ræktunaraðferð sem tekur mið af alheimsorku og felur m.a. í sér að brugga töfraseið til að gefa landinu meiri lífsorku. Á þessari sýningu hefur hún komið fyrir búgarði sem smíðaður er úr gamalli eldhúsinnréttingu og svo hefur hún ræktað úr fræjum sem áður voru geymd inni í eldhússkápunum.“ Að sögn Ingu Þóreyjar hefur vinnan við sýninguna gengið vel og verið sérstaklega ánægjulegt að vinna með frábærum listamönnum og starfsfólki safnsins. Hún ætlar hins vegar að taka því rólega á Ljósanótt eftir allan undirbúninginn. „Áður og fyrr var ég með opið hús en ég ætla að sleppa því núna og njóta þess í stað að ganga um bæinn, skoða sýningar, fara á tónleika og upplifa stemmninguna og mannfjöldann.“

Beinar útsendingar Víkurfrétta á Ljósanótt Sjónvarp Víkurfrétta verður með beinar útsendingar frá ýmsum viðburðum á Ljósanótt, fimmtudag til sunnudags. Við sendum út á Facebook Live. Til að sjá okkur á Facebook þarft þú að setja „Like“ á Víkurfréttir ehf. Sjónvarp Víkurfrétta fær til sín góða gesti á hátíðarsvæði Ljósanætur, sýnt verður frá árgangagöngunni og öðrum viðburðum sem verða á vegi dagskrárgerðarfólks Víkurfrétta. Sjónvarp Víkurfrétta ætlar að fanga stemmningu Ljósanætur og senda hana beint í tölvur og snjalltæki áhorfenda Víkurfrétta út um allan heim.

Sjónvarp Víkurfrétta sendir út á Facebook Live


AFMÆLIS

ÚTSALA ÁRA 1956 - 2016

Bjóðum í sannkallaða útsöluveislu í tilefni 60 ára afmælis Húsasmiðjunnar

ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR Flísar 20-40% afsláttur Handverkfæri 20- 30% afsláttur Verkfæratöskur 20-50% afsláttur Stanley verkfæri 20% afsláttur Black & Decker rafmangsverkfæri 25% afsláttur Hitachi rafmagnsverkfæri 20% afsláttur DeWalt rafmagnsverkfæri 20% afsláttur Álstigar og -tröppur 20% afsláttur Garðverkfæri 30% afsláttur Ryksugur 20% afsláttur Plastkassar 30% afsláttur Þvottasnúrur 25% afsláttur Valdar innihurðir frá Jeld Wen 20% afsláttur Nilfisk háþrýstidælur og ryksugur 20% afsláttur Henrad miðstöðvarofnar 20% afsláttur

Stanley loftpressur 25% afsláttur Málning 20% afsláttur Vegg- og loftaþiljur 20% afsláttur Örbylgjuofnar 20% afsláttur Búsáhöld 25-30% afsláttur Valdar vörur á lækkuðu verði: Frystikistur • Parket Blöndunartæki • Vaskar.

... og margt fleira!

- 50 - 30% - 20% - 30% - 40% - 50% - 20% - 30% - 40% - 50% - 40% 40% 50% JÁLUÐ TILBOÐ - BRJÁLUÐ TILBOÐ - BRJÁ LUÐ TILBOÐ - BRJÁLUÐ TILBOÐ - BRJÁLU Ð TI *Gildir ekki af tilboðum og „Lægsta lága verði Húsasmiðjunnar“. Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Vöruúrval getur verið misjafnt milli verslanna.

Byggjum á betra verði

w w w. h u s a . i s


18

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Sveitapiltsins draumur í Duushúsum

Ástleysissaga hinsegin bóndasonar ●●Vigdís Viggósdóttir ljósmyndari nam iðnina seint

Tröpputónar á Heiðarbrún ●●Valdimar og súpa

„Við hjónin höfum gengið með það lengi í maganum að vera með einhvers konar uppákomu á Ljósanótt og bjóða heim. Hugmyndin kviknaði á sínum tíma eftir að hafa upplifað súpufjör hjá vinum okkar á Fiskideginum á Dalvík. Nú ætlum við að láta verða af því og bjóða í nokkurs konar götupartý,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem ásamt Guðjóni manni sínum bjóða til ‘Tröpputóna’ á laugardegi á Ljósanótt, á milli 18 og 20. Í súpu og músík. Guðjón sem er meistarakokkur fjölskyldunnar hefur legið yfir súpuuppskriftum að undanförnu, fengið góð ráð og aðstoð hjá snillingum eins og

Axel Jónssyni og samkvæmt heimildum Víkurfrétta er ekki ólíklegt að kókos og karrý verði meðal innihalds í súpunni góðu. Ragnheiður Elín segir að þetta verði ekki kosningapartý, heldur fyrst og fremst Ljósanæturteiti þar sem öllum er boðið á meðan súpubirgðir leyfa. „Jú, ég er í prófkjörsundirbúningi um þessar mundir, en þarna verður engin pólitík, bara góð súpa og tónlist. Hinn eini sanni Valdimar og Björgvin Ívar munu halda uppi söng og tónlist og kveikja í Ljósanæturgestum fyrir kvölddagskrána,“ sagði Ragnheiður Elín sem hvetur alla til að kíkja við á Heiðarbrúninni á leiðinni niður í bæ.

HAUSTFERÐ ELDRI BORGARA

TIL VESTMANNAEYJA 22. SEPTEMBER verður farin 1. september 2015. Verð Í ferð er kr. 10.000.- til 12.000,Skráning í ferðina hefst í dag 1. september. Skráning lýkur 14. september á Nesvöllum, þá verða allir að borga staðfestingargjald kr. 5.000,Lydía s. 423-7604 / 898-4654 Bjarney s. 421-1961 / 822-1962 Örn s. 846 7334 Rútan fer frá: Auðarstofu, Garði kl. 8.00 Miðhúsum, Sandgerði kl. 8.30 Nesvöllum, Reykjanesbæ kl. 9.00 Stoppað verður við afleggjara að Grindavík. Gjald greitt í Rútu – tökum ekki kort. Geymið auglýsinguna Ferðanefnd

Ljósmyndasýningin „Sveitapiltsins draumur“ opnar í anddyri Duushúsa á Ljósanótt en umfjöllunarefni hennar er samkynheigð og fordómar. Listamaðurinn er Vigdís Viggósdóttir ljósmyndari sem búið hefur í Grindavík frá árinu 2000 en þangað flutti hún frá Skagaströnd þar sem hún er fædd og uppalin. Vigdís hafði unnið sem bókari hjá fyrirtækinu Martak ehf. en hún hætti því sl. vor og ákvað að taka ljósmyndunina af meiri alvöru en hún lauk námi frá Ljósmyndaskólanum 2014. „Ég fór seint í það að mennta mig en hef alltaf verið dugleg að taka myndir í náttúrunni og spegla mig í henni. Þegar ég vann að þessari sýningu fór ég í annars konar landslag sem eru innviðir húss, húsið verður persóna. Ég er alltaf að leita að táknum fyrir það sem ég vil segja,“ segir Vigdís en ljósmyndaverkið er að hennar sögn ástarsaga eða nokkurs konar ástleysissaga. Líf einstaklings í fordómafullu samfélagi þar sem samkynheigð er tabú

„Það má segja að þetta sé gömul saga og ný, saga einstaklings sem lifir í fordómafullu samfélagi þar sem samkynhneigð er tabú og samkynhneigðir útskúfaðir. Þetta er saga þess fordæmda sem haldinn er djúpri skömm, sektarkennd og sjálfshatri. Með öllum ráður reynir hann að afneita eigin hvötum. Feluleikur og sjálfsblekking einkennir líf hans. Hann er óhamingjusamur og ófullnægður. Einungis í draumum sínum nýtur hann lífsins þar sem upphlaðnar kraumandi ástríður hans fá notið sín. Í skápnum er hann öruggur.” Ljósmyndirnar tók Vígdís í eyðubýlinu Miðhúsi í Skagafirði meðan hún dvaldi á listasetrinu Bæ á höfðaströnd vorið 2015.

Ég ákvað að segja annars konar ástarsögu

„Hugfangin gekk ég um yfirgefið rýmið og myndaði það sem fyrir augun bar, ég sá fyrir mér fólkið sem þarna bjó en ég þekkti ekkert til. Ég ímyndaði mér líf þess og tilveru í húsinu, kynslóð fram að kynslóð og þar kviknaði hugmyndin að þessari verki. Mig langaði að segja ástarsögu heimasætu og sveitapilts af næsta bæ. Saga þeirra átti að enda eins og ástarsögum ber, eitthvað á þessa leið: þau áttu bör og buru, grófu rætur og muru, “ segir Vigdís en verkið tók aðra stefnu. “Í miðju ferlinu átti ég samtal við konu sem á samkynhneigða dóttir. Átakanleg frásögn hennar af baráttu dótturinnar þegar hún kom útúr skápnum breytti hugsun minni varðandi söguþráðinn og þar af leiðandi seríunni minni, hún klofnaði í tvennt, annarsvegar í ,,Heimasætan” og hinsvegar í ,,Sveitapiltsins draumur”. Ég ákvað að segja annarskonar ástarsögur.”

Ljósanótt sameinar listafólk og listunnendur

Vigdís hefur tekið þátt í Ljósanótt á hverju ári frá 2012 og segir sýningahaldið vera orðið að skemmtilegri hefð. „Fjögur ár er ekki langur tími en fyrir mér er þetta orðin skemmtileg hefð og mikil hvatning. Ljósanótt sameinar listafólk og listunnendur og er mjög mikilvægur vettvangur menningar og listar og ég hlakka sannarlega til

Látum af fordómum, líf er í húfi. Ástin er allra. Verkið sveitapiltsins draumur er byggt á sex ljósmyndum og hverri þeirra fylgir sex orða saga. Myndin sem hér má sjá er sú fyrsta í seríunni og henni fylgir þessi örsaga. Með kvíðahnút í maganum, sjálfsmyndin brotin. Er þetta andlit eða kviður á manni? Þarna hefur verið spegill og hann er brotinn sem er táknrænt fyrir brotna sjálfsmynd.

þessarar árlegu veislu,” segir Vigdís en viðfangsefni hennar hafa frá upphafi endurspeglað tilfinningalíf mannsins og að sjálfsögðu hennar eigin og þar er náttúran tjáningarformið og móðir jörð fyrirsætan. „Seríurnar Með eigin augum sem ég sýndi 2012 á Ljósanótt, Samruni 2013 og Skepna sem var útskriftarverkið mitt 2014 fela allar í sér myndefni úr

VF.IS

TÖLVUNNI

Í NÝJUM FÖTUM

FYLGSTU MEÐ Í...

náttúrunni þar sem ég spegla mannlegar tilfinningar á myndrænan hátt og túlka á minn hátt samhliða texta sem styður við verkin. Í fyrra og í ár eru verkin Heimasætan og Sveitapiltsins draumur ljósmynduð í annarskonar landslagi, í innviðum húss. Yfirgefið húsið táknar einangraðan og óhamingjusaman einstakling, tilfinningar hans og þrár.”

SNJALLSÍMANUM

SPJALDTÖLVUNNI


Við óskum gestum ljósanætur góðrar skemmtunar


20

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Bifhjólaklúbbar Suðurnesja

MÓTORHJÓLAÁHUGI HEFUR MARGFALDAST

Samtökin Bikers Against Childe Abuse starfa í þeim tilgangi að búa misnotuðum börnum öruggara umhverfi.

●●Öryggismál og grillaðar pulsur meðal fastra liða ●●Nærri eitt þúsund hjól skráð á Suðurnesjum

Mikil aukning hefur verið á bifhjólum á Suðurnesjum síðastliðin tíu ár. Árið 2015 voru 905 bifhjól skráð á Suðurnesjum samkvæmt Samgöngustofu en árið 1995 voru aðeins 102 bifhjól skráð. Bifhjólaklúbbar hafa myndast í kjölfarið þar sem einstaklingar sem eiga það sameiginlegt að hafa áhuga á bifhjólum koma saman. Meðal bifhjólaklúbba á Suðurnesjum eru Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja, Grindjánar, Sons of Freedom og Lords & Ladies. Þann 27.apríl 2001 komu 46 áhugamenn um mótorhjól saman og stofnuðu Erni Bifhjólaklúbb Suðurnesja. Síðan þá hefur verið gefið út 405 félagsmerki og í dag eru rúmlega hundrað virkir meðlimir. Þó svo að klúbburinn hafi verið stofnaður árið 2001, þá á nafnið Ernir sem bifhjólaklúbbur sér lengri sögu. Á áttunda áratugnum stofnuðu nokkrir gagnfræðinemendur bifhjólaklúbb undir nafninu Ernir. Það mætti því segja að klúbburinn hafi verið endurvakinn árið 2001. Óskar Húnfjörð hefur verið formaður Arna síðastliðið ár og svaraði nokkrum spurningum. Hagsmunasamtök með öryggið í fyrirrúmi

„Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja eru hagsmunasamtök fyrir bifhjólafólk og leggur mikla áherslu á öryggismál. Klúbburinn er með forvarnardag einu sinni á ári þar sem lögreglan og Brunavarnir fara yfir öryggisreglur og ökuhæfni með félagsmeðlimum. Við erum að reyna að koma af stað nýju átaki að koma félagsmeðlimum í sýnilegri vesti svo auðveldara sé fyrir aðra bílstjóra að sjá okkur. Ég vona að við getum smitað þessa hugsun í aðra klúbba og til annars hjólafólks. Vegna fjölda skráðra bifhjóla á Íslandi er það ekki síður mikilvægt að bílstjórar verði að gera ráð fyrir því að það séu bifhjól ávallt nálægt í umferðinni og geta verið á hverjum gatnamótum,“ segir Óskar.

Hópdýr

Starfsemi klúbbsins felur í sér að halda utan um félagsmeðlimi, uppákomur og hefðir ásamt því að vera í forsvari út á við fyrir hönd félaga. Félagsheimili Arnanna er staðsett á Þjóðbraut nr. 722 á Ásbrú og heitir Arnarhreiðrið. Þar hittast félagsmeðlimir og fá sér kaffi eða grillaðar pylsur áður en farið er að hjóla. „Mótorhjólafólk er svona hópdýr eins og við köllum, það er gaman að hjóla saman og hjóla í hópkeyrslu. Við höfum ekki gert það í ár en það hefur í gegnum tíðina verið hefð að hjóla á fimmtudagskvöldum. Þetta er hlutur sem við erum að reyna að koma í gang aftur en verður örugglega ekki fyrr en næsta sumar,“ segir

Óskar. Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja er með opinn Facebook hóp þar sem settar eru reglulega inn upplýsingar um væntanlega viðburði og hjólatúra. Þar er einnig hægt að skoða myndir af fyrri viðburðum og ferðum. Til að verða meðlimur í klúbbnum þarf að fylla út umsóknareyðublað sem er á Facebook síðu þeirra og fer umsóknin fyrir stjórn.

Skipulagðar hópkeyrslur

Ernir stendur fyrir skipulögðum hópkeyrslum við margs konar tilefni. Olíufélög skiptast á að bjóða í pylsupartý á undan hópkeyrslum. „Mótorhjólafólk er mikið pylsufólk og því það er alltaf byrjað á því að grilla pylsur,“ segir Óskar. Þann 25.júní 2016 var Reykjanesdagur Arna á sama tíma og Sólseturshátíð í Garði. Reykjanesdagur Arna er haldinn í samvinnu við N1 á Ásbrú sem býður hjólafólki upp á pylsur og meðlæti áður en lagt er af stað í hópkeyrslu. Keyrt var í Garðinn og hjólunum stillt upp til sýnis. „Svo er stóri dagurinn okkar Ljósanótt. Þá stendur klúbburinn fyrir hópkeyrslu og þar getum við verið að fá fleiri hundruð hjól. Klúbburinn hefur staðið fyrir hópkeyrslu á Ljósanótt frá upphafi og er allt bifhjólafólk á landinu velkomið. Það er svo mikil stemning þegar svona margir bifhjólamenn koma saman,“ segir Óskar.

Hópkeyrsla á Ljósanótt

Hópkeyrslan á Ljósanótt verður á laugardaginn 3. september. Fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt í hóp-

Feðgarnir Erlingur og Ísak. Erlingur hefur hjólað síðan hann var 17 ára og er búinn að smita áhugann í Ísak sem er 12 ára og stundar mótorkross.

Yfir hundrað hjól og um 180 manns voru á afmæli Grindjána.

keyrslunni er mæting klukkan 13.00 hjá Olís ÓB bílaplaninu í Njarðvík þar sem að sjálfsögðu verður boðið upp á grillaðar pylsur og meðlæti. Klukkan 14.00 verður tekinn smá upphitunarhringur um Reykjanesið, líklega í Garð, Sandgerði og Keflavík en það fer eftir veðri. Hringurinn endar á Olís ÓB bílaplaninu þar sem hjólunum verður stillt upp áður en lagt er af stað í hópkeyrsluna klukkan 15.00. Keyrt verður í gegnum Keflavík og niður Hafnargötuna og geta allir sem vilja sjá þennann stórkostlega flota af bifhjólum fylgst með. Hópkeyrslan endar á SBK planinu þar sem hjólunum verður stillt upp til sýnis fyrir almenning. Klúbburinn er í samvinnu vð lögregluna og munu þrjú lögreglumótorhjól stjórna umferð í kringum hópkeyrsluna. Hópkeyrslan hefur ætíð verið skemmtilegur liður af Ljósanótt og hvetur Ernir almenning til að mæta og fylgjast með.

Frá afmælishátíð Grindjána, mikið af leðri.

Grindjánar

Bifhjólaklúbburinn Grindjánar var stofnaður 28. ágúst 2006 í Grindavík. Hjónin Hrafnhildur Björgvinsdóttir og Davíð Friðriksson eru tvö af stofnmeðlimum Grindjána og hafa verið að hjóla í tugi ára. Hrafnhildur Björgvinsdóttir formaður Grindjána svaraði nokkrum spurningum. Hrafnhildur hefur verið formaður frá stofnun klúbbsins og hjólað í 20 ár. „Maðurinn minn var byrjaður að hjóla. Ég var eiginlega á móti mótorhjólum en fór einu sinni með honum

Meðlimir Unknown Bikers.


fimmtudagur 1. september 2016 og þá var ekki aftur snúið. Við fluttum til Grindavíkur árið 2003 og keyptum okkur aftur bifhjól 2006. Við gengum fyrst í Erni en svo langaði okkur að stofna klúbb á þessu svæði. Við fórum hér út og sáum fólk sem var að hjóla og buðum þeim að koma sem höfðu áhuga á að stofna klúbb heim til okkar 28. ágúst 2006,“ segir Hrafnhildur. Þann dag komu saman ellefu einstaklingar og var bifhjólaklúbburinn Grindjánar þar með stofnaður. Af þessum ellefu stofnfélögum eru ennþá fimm í klúbbnum og eru Grindjánar 36 talsins í dag. Mest hafa verið 50 í klúbbnum, en þau eru með þak yfir meðlimafjölda að ekki eru teknir inn fleiri en 50 félagar. Þegar aðsóknin var sem mest var biðlisti. Gefin hafa verið út 97 félagsmerki. Félagsmeðlimir Grindjána eru af öllum aldri, yngsti meðlimur er 20 ára og elsti 70 ára.

Hittast í Virkinu

Á hverjum þriðjudegi klukkan 19.30 hittast Grindjánar í félagsheimilinu þeirra Virkinu og ef veður leyfir er hjólað. Starfsemi klúbbsins felst í því að hittast, hjóla og fara í hjólaferðir. Þau eru búin að fara í ótal ferðir síðan klúbburinn var stofnaður og hægt er

Maðurinn minn var byrjaður að hjóla. Ég var eiginlega á móti mótorhjólum en fór einu sinni með honum og þá var ekki aftur snúið.

21

VÍKURFRÉTTIR að skoða myndir frá sumum ferðanna á Facebook síðu þeirra og heimasíðu þeirra www.grindjanar.com. „Við förum í dagsferðir en einniger stundum gist. Við fórum fjögur saman hringinn í sumar og á landsmót bifhjólamanna,“ segir Hrafnhildur og bætir því við að klúbburinn sé virkur allt árið um kring. „Við erum alltaf með fjóra fasta viðburði á veturna. Októberfest er fyrstu helgina í október, Jólagleðin fyrstu helgina í aðventu, Þorragleði fyrstu helgina í febrúar og aðalfundur í apríl og yfirleitt vorgleði eftir á. Yfir sumartímann er Sjóarinn Síkáti okkar aðalviðburður. Þá stöndum við Grindjánar fyrir hópkeyrslu. Í sumar mættu 187 hjól í hópkeyrsluna, keyrt var í gegnum hátíðarsvæðið og endað fyrir utan Virkið þar sem við buðum öllum upp á pylsur og gos. Seinnipart laugardags og sunnudags buðum við upp á svokallaða krakkakeyrslu. Þá fá krakkar að sitja aftan á hjólunum okkar á meðan við keyrum stuttan hring á lokuðu svæði. Þetta er í miklu uppáhaldi hjá börnunum. Við erum með fullt af hjálmum, beltum og öðrum öryggisbúnaði fyrir þau,“ segir Hrafnhildur.

Aðspurð hvort Grindjánar ætli að taka þátt í hópkeyrslunni á Ljósanótt svarar Hrafnhildur játandi. „Við gerum það yfirleitt alltaf.“

10 ára afmæli Grindjána

Grindjánar héldu upp á 10 ára afmælið sitt 27. ágúst með glæsibrag. Klúbburinn bauð alla velkomna í tertuhlaðborð og tilheyrandi í Virkinu. Bifhjólaklúbbar og hjólafólk víðsvegar um landið létu sjá sig. Meðal þeirra var hjólamaðurinn Matthías Axelsson sem kom alla leið frá Akureyri. „Hann er sennilega mesti hjólari á landinu, það er enginn sem hjólar jafn mikið og hann,“ sagði Gunnar Hafdal. Meðal þeirra bifhjólaklúbba sem mættu í veisluna voru Sober Riders, Unknown Bikers og Bikers Against Child Abuse. Það skorti ekki félagsmeðlimi frá öðrum bifhjólaklúbbum Suðurnesja, en merki Arna, Lords and Ladies og Sons of Freedom voru sýnileg. „Við erum rosalega ánægð með mætinguna. Við vissum ekki hverju við áttum von á en þetta er alveg æðislegt. Það voru rúmlega hundrað hjól hérna og 180 manns,“ sagði Hrafnhildur formaður Grindjána.

Hrafnhildur formaður Grindjána á sínu hjóli.

Óskar Húnfjörð, formaður Arna.

Miðaldra karlar í leðri

„Ef við horfum almennt yfir bifhjólaklúbba þá eru þetta oftast miðaldra menn í töff klæðnaði á geggjuðum hjólum,“ segir Óskar og hlær en leður er mjög áberandi klæðnaður hjá bifhjólafólki. Vinsældir leðursins kemur ekki aðeins vegna þess að það er töff heldur er leður viðeigandi öryggisbúnaður fyrir bifhjólafólk. „Það er regla hjá bifhjólafólki að bera einkennismerki sitt á vinstri öxl. Það er vegna þess að þegar bifhjólafólk mætist á götum þá sér það merkið hjá hvort öðru. Það er líka nánast undantekningarlaust að bifhjólafólk heilsist þegar það mætir hvort öðru. Þorri bifhjólafólks á Íslandi eru í afþreyingarklúbbum. Oftast er þetta saklaust fjölskyldufólk sem á sameiginlegt áhugamál að hjóla og eyðir frístundum sínum í hjólin sín og þann félagsskap sem fylgir þessu,“ segir Óskar.

Soho býður Elías Örn velkominn til starfa

OPIÐ FIMMTUDAG TIL SUNNUDAGS

Davíð Friðriksson, einn af stofnfélögum Grindjána hafði svipaða sögu að segja um bifhjólafólk á Íslandi. Þegar hann er aðspurður hvort hann finni fyrir fordómum eða ótta frá almenning þegar þau eru einkennisklædd þá svarar hann neitandi. „Þetta er ekki eins og það var. Þetta er búið að breytast mikið eftir að klúbbarnir voru fleiri og sýnilegri á Íslandi. Það vita flestir að þetta er aðallega fjölskyldufólk sem hefur gaman af því að hjóla saman en ekki glæpaklúbbar. Maður verður mest var við að túristar færa sig þegar við löbbum nokkur saman einkennisklædd. Þeir eru vanir allt öðruvísi bifhjólaklúbbum og umhverfi heldur en hér. Á Íslandi er þetta mestmegins saklaust fólk sem kemur saman til að hjóla,“ segir Davíð. Texti og myndir: Guðrún Ósk Guðjónsdóttir.

OPIÐ

Á KVÖLD IN Á LJÓSAN ÓTT

FRÁ KL. 11:00 – 21:00

FISKRÉTTIR // STEIKUR // SALÖT KAFFI // KÖKUR MATSEÐILINN ER Á WWW.SOHO.IS TILVALIÐ FYRIR VINNUSTAÐI AÐ PANTA OG SÆKJA Soho Catering – Veisluþjónusta // Hrannargata 6 ( áður Raggi bakari) // Sími: 421 7646 // Gsm 692 0200 // www.soho.is


22

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Verið velkomin

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

NÝTT

Matar og hönnunarveisla á Park Inn Keflavík Matar og hönnunarveisla verður á Park Inn Keflavík á Ljósanótt. Hótelið hefur lengi spilað stórt hlutverk í Ljósnæturgleðinni og er ekkert gefið eftir þetta árið og öllu tjaldað til, segir í tilkynningu. Hefur hótelið fengið til liðs við sig marga af fremstu hönnuðum landsins bæði héðan af svæðinu og annars staðar af landinu. Þá ætla matreiðslumeistarar á VOCAL Restaurant að galdra fram sælkeraveislur alla helgina við seiðandi undirleik hljómsveitarinar Delizie Italiane. Suðurnesin hafa í gegnum tíðina alið marga frábæra hönnuði, listamenn og nýsköpunar-Gúrúa og má þar meðal annars nefna : Agnes Design, Cococaravan Ísland, geoSilica Iceland, Hildur H. List-Hönnun, Rakel S Steinþórsdóttir, Sissý Art, Skinboss, Togga og MÝR (Helga Björg Steinþórsdóttir) sem heldur uppá

HEIÐARLEIKI - FAGMENNSKA - METNAÐUR

10 ára hönnunarafmæli á Park Inn á Ljósanótt. Aðrir hönnuðir sem mæta eru m.a.: Brak, Engilberts-hönnun, Eva Hulda, GuSt Reykjavik Design, Halldóra Iceland, Hár úr hala, Jónsdóttir & Co, Koffort - Icelandic Wool Design, LeiraMeira, Skyrta Iceland, Spot Iceland, Þóra Björk Design og Taramar snyrtivörur. Vocal Restaurant verður með útigrill og street food stemningu föstudag frá klukkan 17:00 til 19:00 og laugardag frá klukkan 13:00 til 17:00. Þá verður Smárréttaævintýri á VOCAL fimmtudag og föstudag og brunch hlaðborð á laugardeginum. Nánar um viðburðinn á Facebook: Hönnunarveisla á Ljósanótt.

Forvarnir með næringu

Opið alla daga fram á kvöld

STAPAFELL

Hafnargötu 50, Keflavík

SELUR ALLT

Við höfum opnað nýja starfsstöð að Hafnargötu 91 (við hlið Íslandsbanka) Elínrós í Bíósalnum í Duus húsum. Sýningin er að hluta til yfirlitssýning og eru þar málverk, teikningar, skissur, postulín og skartgripir.

RB

Þórarinn Kópsson

Löggiltur fasteignasali Sími: 615-3343

RB

Páll Þorbjörnsson Aðstoðarmaður Sími: 698-6655

RB

Ólafur Kristjánsson Aðstoðarmaður Sími: 786-1414

GR

Þorbjörn Pálsson

Löggiltur fasteignasali Sími: 898-1233

GR

Dagbjartur Willardsson Aðstoðarmaður Sími: 861-7507

RB ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALA SUÐURNESJA Hafnargata 91 - Reykjanesbær - sími 560-5515 sudurnes@alltfasteignir.is

20%

GR ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALAN Í GRINDAVÍK Víkurbraut 46 - Grindavík - sími 426-8890 - grindavik@alltfasteignir.is

Ljósanæturafsláttur

Telur blómin það fallegasta á jörðinni ●●Fór fertug í myndlistarnám ● og hefur haft listina að atvinnu síðan Blómahaf nefnir Elínrós Blomquist Eyjólfsdóttir sýningu sína í Bíósalnum sem opnar í dag, fimmtudag, klukkan 18:00 og stendur til 30. október. Á sýningunni, sem verður að hluta til yfirlitssýning á verkum hennar, getur að líta málverk, teikningar og skissur, postulín og skartgripi. Sýningarstjóri er Gunnhildur Þórðardóttir myndlistarmaður. Ein myndanna á sýningunni er íkon sem gerður var með sérstakri aðferð frá tólftu öld og er 24 karata blaðgull lagt á bakgrunninn. Alls hefur Elínrós gert sjö íkona og hefur fyrir reglu að gefa barnabörnum sínum eina slíka í fermingargjöf. Eins og yfirskrift sýningarinnar gefur til kynna eru flest verkin myndir af blómum enda eru þau í sérstöku uppáhaldi hjá listakonunni. „Blómin eru það fallegasta á jörðinni. Hvergi annars staðar finn ég eins fallega liti og í blómunum,“ segir Elínrós sem málar alltaf frá hjartanu og eftir lifandi blómum og uppstillingum. Elínrós hefur lengst af búið í Reykjanesbæ en hún ólst upp á Akureyri til

12 ára aldurs. Á árum áður rak hún verslunina Álnabæ og fékkst við önnur verslunarstörf. Hún er orðin 75 ára og er ekkert á leiðinni að setjast í helgan stein. „Það er alltaf svo gaman hjá mér í vinnunni. Í myndlistinni er alltaf hægt að bæta sig og læra eitthvað nýtt. Ég verð í þessu á meðan ég tóri,“ segir Elínrós sem byrjaði sinn feril í Baðstofunni í Keflavík hjá Eiríki Smith. Þegar hún varð fertug og börnin hennar tvö uppkomin ákvað hún að flytja til Reykjavíkur í nokkur ár og nema myndlist við Myndlistaog handíðaskóla Íslands. Hún hélt áfram að þróast sem listamaður með því að sækja námskeið hjá þekktustu kennurum beggja vegna hafsins. Árið 1995 lauk hún meistaranámi í málun frá Skidmore College í Bandaríkjunum. Listamannaspjall með Elínrós verður sunnudaginn 4. september klukkan 15. Sýningin verður opin alla daga frá klukkan 12 til 17 og stendur til 30. október.

miðvikudag til mánudags

Opnunartími Miðvikudaginn, fimmtudaginn, föstudaginn 11:00 - 22:00

Áklæðið á stólnum saumaði Elínrós þegar hún var tvítug og er hann meðal muna á sýningunni. VF-myndir/dagnyhulda


markhönnun ehf

• KYNNINGAR ALLA DAGA Í NETTÓ • SÉRSTÖK LJÓSANÆTUR TILBOÐ • HOPPUKASTALAR OG HÁTÍÐAR­ DAGSKRÁ ALLA DAGA

DISKÓSÚPA Í BOÐI NETTÓ Á LJÓSANÓTT FÖSTUD. 2. SEPT MILLI 16:00 – 18:00

Til að sporna gegn matvælasóun býður Nettó upp á diskósúpu á Ljósanótt undir merkjum átaksins Minni sóun. Tilgangurinn er að ylja gestum með bragðmikilli súpu sem elduð er úr hráefni sem komið er á síðasta söludag eða er útlitsgallað og færi undir öðrum kringumstæðum í ruslið þó það sé enn í fullu fjöri! Nettó stuðlar að minni sóun og býður stigvaxandiafslátt af vörum sem nálgast síðasta söludag. Vöruverð lækkar eftir því sem líftíminn styttist.

< 50 t

minna sorp

< 75.000.000 kr. í beinum afslætti

Með markvissiri vinnu náði Nettó að minnka sorp sem annars hefði verið urðað eða brennt um 50 tonn það sem af er af ári og stefna á að minnka þetta um 100 tonn árlega. Nettó hefur gefið viðskiptavinum sínum 75 milljónir í afslátt það sem af er ári af vörum sem annars hefðu hugsanlega lent í ruslinu

ÁSDÍS GRASALÆKNIR Veitir heilsuráðgjöf og bíður upp á súkkulaðismakk

NETTÓ KROSSMÓA FIMMTUD. 1. SEPT. 15:00 – 17:00 www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


24

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Gunnhildur og Douglas við uppsetningu á sýningunni Re-Place í vikunni. Saman hafa þau hannað og smíðað ýmsa skemmtilega muni, til dæmis bókahillur og veggklukkur. VF-mynd/dagnyhulda

Sjálfbær hjón með sýningu á Ljósanótt ●●Verkfræðingur og listamaður nýta afganga í listsköpun ●●Lifa eftir því sígilda mottói að safna alltaf fyrir hlutunum „Ég kalla hann oft doktor Douglas því hann getur lagað allt,“ segir Gunnhildur Þórðardóttir, listamaður, um eiginmann sinn Douglas Arthur Place, verkfræðing. Saman halda þau sýningu í Fisherhúsinu á Ljósanótt. Á sýningunni, sem ber yfirskriftina RePlace, verða ný og eldri verk Gunnhildar og munir sem þau hjónin hafa hannað og smíðað saman. Munirnir verða til sölu á sýningunni. Gunnhildur og Douglas kynntust í Cambridge árið 1999. Þá hafði hann nýlokið sínu námi þar en hún var rétt nýbyrjuð á sínu. Saman fluttu þau svo til Íslands eftir að hún hafði lokið námi í listmálun og listasögu og meistaranámi í liststjórnun. Fyrstu árin bjuggu þau í blokkaríbúð í Hafnarfirði en þegar ljóst var að fjórða barnið væri væntanlegt ákváðu þau að flytja til Reykjanesbæjar, þar sem Gunnhildur ólst upp. Þau eiga fjóra drengi

á aldrinum þriggja til tólf ára. „Það var mikið frelsi að flytja aftur í heimahagana og að geta sett upp vinnustofu í skúrnum,“ segir Gunnhildur. Douglas starfar hjá Marel og Gunnhildur kennir við Myllubakkaskóla. Í frístundum sínum hafa þau hannað og smíðað ýmis húsgögn og muni og hafa alltaf sjálfbærni að leiðarljósi í verkum sínum, sem og í daglegu lífi. „Við notum það sem til er en kaupum aldrei nýtt hráefni, nema kannski skrúfur og annað smálegt. Þetta er okkar leið til að nota það sem er til,“ segir Douglas. Hann er þeirrar skoðunar að fólk hendi hlutum allt of snemma en að það hafi sem betur fer breyst í hruninu. „Fólk byrjar að endurnýta og laga þegar það hefur ekki efni á að kaupa nýtt en ég er hræddur um að með bættum efnahag fari fólk aftur að henda nothæfum hlutum.“ Á heimilinu hafa þau það sígilda mottó

að eiga alltaf fyrir því sem þau kaupa og að nýta hlutina sem best. „Það er ákveðinn agi sem felst í því. Svo er það líka mjög gott fyrir umhverfið,“ segir Gunnhildur. Samstarfið hjá Gunnhildi og Douglas hefur gengið vel og hafa þau framleitt ýmislegt á vinnustofunni sinni. „Þetta er frekar einfalt hjá okkur, ég teikna og sýni honum og svo svarar hann því hvort hægt sé að framkvæma hugmyndina eða ekki,“ segir Gunnhildur. Þegar fólk þarf að henda einhverju nýtilegu hugsar það oft til þeirra og kemur með frekar en að henda. „Maður situr því uppi með ýmislegt í skúrnum sem svo kemur yfirleitt að lokum að notum,“ segir Gunnhildur. Fyrstu munirnir sem þau hönnuðu saman voru ýmis húsgögn fyrir börn, eins og til dæmis bókahillur úr trékössum sem til féllu hjá vínbúðum. Þá hafa þau einnig gert skemmti-

legar veggklukkur og nýta í þær ónýta tússpenna enda mikið til af þeim á barnmörgu heimili. Í munina nýta þau einnig afgangsefni úr byggingariðnaði. Gunnhildur fylgir sömu stefnu í sinni listsköpun og nýtur aðstoðar frá Douglas, til dæmis við gerð skúlptúra en í þá notar hún afskurði af plexígleri.

Maggi Kjartans í þætti vikunnar fimmtudagskvöld, kl. 21:30, á sjónvarpsstöðinni ÍNN og á vf.is í háskerpu. Í þættinum er rætt við Magnús um uppvöxtinn í Keflavík, tónlistarferilinn og aðkomu hans að Ljósanótt í ár. Magnús er þátttakandi í mörgum viðburðum í dagskrá Ljósanætur og verður m.a. á stóra sviðinu á laugardagskvöld. Við lofum skemmtilegu viðtali við Magnús!

Sjónvarp Víkurfrétta er í háskerpu á vf.is

dagnyhulda@vf.is

Fólk byrjar að endurnýta og laga þegar það hefur ekki efni á að kaupa nýtt en ég er hræddur um að með bættum efnahag fari fólk aftur að henda nothæfum hlutum

Sjónvarp Víkurfrétta • fimmtudagskvöld kl. 21:30 • ÍNN og vf.is

Magnús Kjartansson tónlistarmaður og einn af sonum Keflavíkur er viðfangsefni Sjónvarps Víkurfrétta í kvöld,

Sýningin verður sem fyrr segir í Fisherhúsi og er gengið inn baka til. Hún stendur frá klukkan 19 til 21 í kvöld, fimmtudagskvöld og frá flukkan 14 til 18 á föstudag og laugardag.


LJÓSANÓTT 2016

Hátíðardagskrá í

KROSSMÓA 4

KYNNINGAR og sérstök LJÓSANÆTUR TILBOÐ í verslunum Krossmóa UN N P O I R G LEN 0 fimmtud. og föstuda. .

alla helgina

0:0 elgin Opið til 2 ettó alla h n í 0 :0 0 2 Opið til

KAFFIVAGN KAFFITÁR Föstudag kl. 15:00 – 19:00

Kaffivagninn frá Kaffitár gefum gestum drykki.

ÁVAXTAKARFAN Föstudag kl. 16:30

Ávaxtakarfan mætir á svæðið og skemmtir. Öll börn fá gefins ávöxt.

HOPPUKASTALAR Laugardag kl. 10:00 – 14:00

Hoppukastalar, grillaðar pylsur og ís í eftirrétt.

VELKOMIN Í KROSSMÓA!


26

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

MISSTI VINNUNA OG OPNAÐI VINNUSTOFU Í SKÚRNUM ●●Opin vinnustofa hjá Svo margt fallegt á Ljósanótt Stína Sæm tekur vel á móti gestum á opinni vinnustofu Svo margt fallegt á Ljósanótt. Vinnustofan er við heimili Stínu og fjölskyldu við Klapparstíg 9 í gamla bænum í Keflavík. Þar verður kynning og nokkur örnámskeið um það hvernig á að mála með mjólkurmálningu eða „milk paint“ eins og málningin er kölluð á ensku. Gestir geta kynnst þessari skemmtilegu gamaldags málningu og prufað að mála. Húsgögn máluð með Milk paint verða einnig til sýnis og sölu á vinnustofunni. „ Mjólkurmálningin er ofsalega skemmtileg enda hægt að leika sér með hana á ýmsan hátt; gefa munum gamaldags útlit, láta málninguna springa og svo framvegis,“ segir Stína. „Ef undirlagið er fráhrindandi er nauðsynlegt að nota bindiefni en á hrein efni, til dæmis við og leir, þá smýgur hún strax inn og þornar á örskotsstundu.“ Á opnu vinnustofunni

ætlar Stína að leyfa fólki að prufa að mála og kynnast þessari skemmtilegu aðferð til að gefa hlutum nýtt útlit. Stína opnaði bloggsíðuna Svo margt fallegt árið 2011. Þar deildi hún með lesendum myndum af ýmsum fallegum húsgögnum og öðru sem gleður augað. „Ég var búin að vera að deila þessu á Facebook-síðunni minni en óttaðist að missa alla vini mína þar sem ekki allir hafa áhuga á svona dúlleríi,“ segir hún. Til að byrja með deildi Stína aðallega myndum sem hún fann á öðrum bloggsíðum en fór svo líka að sýna myndir sem hún tók sjálf heima hjá sér og urðu þær strax vinsælli meðal lesenda á blogginu. Síðar stofnaði Stína Facebook-síðuna Svo margt fallegt og eru fylgjendur síðunnar nú tæplega fimm þúsund. Þessa dagana er Stína svo að setja á laggirnar vefverslun á bloggsíðunni. Þar ætlar hún að selja mjókurmálninguna, áhöld og uppgerðu húsgögnin.

Stína Sæm ætlar að kynna kosti mjólkurmálningar fyrir gestum á Ljósanótt. Hún stofnaði bloggsíðuna Svo margt fallegt árið 2011 og eru fylgjendur síðunnar nú um fimm þúsund. VF-mynd/dagnyhulda

Í fyrra missti hún vinnuna sína í blómabúð en verið var að selja fyrirtækið. Þá ákvað hún að skapa sér atvinnu sjálf og standsetti vinnustofu í skúrnum. Þar er nóg að gera og heldur Stína námskeið og gerir upp gömul húsgögn fyrir fólk, auk þess að kaupa gömul húsgögn, gera þau upp og selja. Nú starfar hún í ann-

arri blómabúð meðfram verkefnunum sem tengjast bloggsíðunni og vinnustofunni. Þegar Stína heyrði af mjólkurmálningunni heillaðist hún af kostum hennar og hefur þegar málað ýmsa muni og haldið námskeið fyrir vinahópa. Málningin er aðeins gerð úr fimm efnum og því umhverfisvæn og án eiturefna. Að sögn Stínu er

mjólkurmálning mjög vinsæl í Bandaríkjunum. Stína er sú eina sem selur hana hér á landi. Vinnustofan verður opin í dag fimmtudag frá klukkan 18 til 22 og á föstudag og laugardag frá 12 til 19, báða dagana. Allir eru velkomnir.

Þrír Suðurnesjamenn meðal VIÐ OPNUM efstu hjá Bjartri framtíð

FLJÓTLEGA Í LEIFSSTÖÐ STARFSFÓLK ÓSKAST Í EFTIRFARANDI STÖÐUR Óskum eftir vaktstjórum á vaktir, þarf að geta byrjað sem fyrst. Umsjón með framleiðslu á mat, vaktaplönum og mannaráðningum. Óskum eftir afgreiðslufólki á vaktir, þarf að geta byrjað sem fyrst. Umsjón með framleiðslu á mat og jákvæðu hugarfari. Vinsamlegast sendið umsóknir á brynja@ginger.is með ferilskrá

●●Páll Valur Björnsson leiðir í Suðurkjördæmi Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar úr Grindavík, mun leiða lista flokksins í Alþingiskosningunum 29. október næstkomandi. Lovísa Hafsteinsdóttir, náms- og starfsráðgjafi úr Reykjanesbæ, verður í þriðja sæti á listanum og Jasmina Crnac, stjórnmálafræðinemi sömuleiðis úr Reykjanesbæ, er í fjórða sæti. Stjórn Bjartrar framtíðar samþykkti í síðustu viku efstu frambjóðendur á framboðslistum í öllum kjödæmum.

framhaldsskólakennari og stjórnsýslufræðingur 6. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri

Hér má sjá lista Bjartar framtíðar í Suðurkjördæmi

1. Páll Valur Björnsson, kennari og þingmaður 2. Þórunn Pétursdóttir, landgræðsluvistfræðingur 3. Lovísa Hafsteinsdóttir, náms- og starfsráðgjafi 4. Jasmina Crnac, stjórnmálafræðinemi 5. Eyrún Björg Magnúsdóttir,

Beinar útsendingar Víkurfrétta á Ljósanótt Sjónvarp Víkurfrétta verður með beinar útsendingar frá ýmsum viðburðum á Ljósanótt, fimmtudag til sunnudags. Við sendum út á Facebook Live. Til að sjá okkur á Facebook þarft þú að setja „Like“ á Víkurfréttir ehf. Sjónvarp Víkurfrétta fær til sín góða gesti á hátíðarsvæði Ljósanætur, sýnt verður frá árgangagöngunni og öðrum viðburðum sem verða á vegi dagskrárgerðarfólks Víkurfrétta. Sjónvarp Víkurfrétta ætlar að fanga stemmningu Ljósanætur og senda hana beint í tölvur og snjalltæki áhorfenda Víkurfrétta út um allan heim.

Sjónvarp Víkurfrétta sendir út á Facebook Live


G L E Ð I N O G FJ Ö R I Ð L I G G U R Í LO F T I N U

Við óskum Suðurnesjamönnum og gestum þeirra góðrar skemmtunar á Ljósanótt.

– Starfs fó lk I s av ia

- HLUTI AF GÓÐU FERÐALAGI


28

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Bjarni var sá eini í hópnum sem svaf undir berum himni, í mörgum peysum og í svefnpoka á meðan hinir gistu í bílnum. „Það var ansi mögnuð upplifun, það er engin ljósmengun þannig að maður sér allar stjörnurnar skína skært. Þarna liggur maður aleinn í afslappandi umhverfi og sofnar í algjöru hljóði.“

HORFIR ÖÐRUVÍSI Á HEIMINN EFTIR DVÖL Í ÓBYGGÐUM AFRÍKU

Í byrjun árs ferðaðist Bjarni Halldór Janusson um Suður-Afríku og landleiðina í gegnum fjögur Afríkulönd, um sjö þúsund kílómetra á 24 dögum. Leiðin lá í gegnum Namibíu, Botswana og Zimbabve. Þar svaf hann undir berum himni í eyðimörk, stóð í návígi við nashyrninga og kafaði með hákörlum og krókódílum, svo fátt eitt sé nefnt. „Við vorum hópur af fólki frá ýmsum löndum sem ferðuðumst á stórum trukki með eldhúsi. Á leiðinni stoppuðum við á helstu stöðum þessara landa og tjölduðum. Stundum var ekki síma- eða netsamband í nokkra daga og lítið um sturtuferðir en það var hluti af ævintýrinu,“ segir Bjarni í samtali við blaðamann. „Það er ansi magnað hvað maður upplifði mikið og lærði í þessari ferð. Maður þarf að fara langt út fyrir þægindarammann og gerði til dæmis Suður-Afríkubúinn sem var með í ferðinni óspart grín að okkur Evrópubúunum,“ en Bjarni fór nokkuð langt út fyrir þennan svokallaða þægindaramma. Langaði að prófa sjálfan sig og fara út fyrir rammann Hann fór bæði í fallhlífarstökk í eyðimörk í Namibíu og teygjustökk, auk þess sem Bjarni fór á eigin vegum í hákarla- og krókódílaköfun í SuðurAfríku. „Mig langaði að „testa“ sjálfan mig og sjá hvernig ég myndi höndla

þetta og það var svolítið gaman. Ég varð alveg smeykur á meðan á þessu stóð en það er mjög gaman eftir á að hafa gert þetta. Fyrst maður er kominn út fyrir þægindarammann er eins gott að fara bara lengst út fyrir hann,“ bætir Bjarni við en hann hafði einnig náin samskipti við framandi dýr í ferðinni. „Einn daginn fórum við að leita að nashyrningum á fjalli og maður upplifði að hafa þá svona tveimur metrum frá sér úti í náttúrunni. Sem betur fer voru þeir í góðu stuði og vildu greinilega ekki traðka á mér. Ég lærði í ferðinni að þó að mörg dýr geti verið árásargjörn eru þau líka friðsæl ef maður kemur fram við þau af virðingu.“

Fordómar fyrir framandi stöðum

Ferðin snerist mest um að vera í óbyggðunum en inn á milli hitti hópurinn heimamenn og fékk að kynnast menningu þeirra. „Það er aldrei að vita nema maður fari aftur á

þetta svæði og komist þá í betri tengsl við heimamenn. Um leið og ég kom heim var ég alveg staðráðinn í því að fara aftur út, en þá ekki í óbyggðaferð heldur annars konar ferð þar sem maður kynnist heimafólki og/eða sinnir sjálfboðaliðastarfi. Mér fannst mjög fróðlegt að læra um lífið og stjórnmálaástandið í þessum löndum en alltaf þegar við keyrðum á milli staða nýtti ég tækifærið og spjallaði við fararstjórann sem átti afa sem hafði upplifað aðskilnaðarstefnuna í S-Afríku á eigin skinni,“ en Bjarni hefur mikinn áhuga á samfélags- og stjórnmálum. „Stjórnmála- og efnahagsástandið í S-Afríku er að þróast í betri átt og það var rosa gott að vera þarna. Það kom mér á óvart af því að ég hafði lesið að Cape Town væri einhver hættulegasta borg í heimi með eina mestu morðtíðnina, en Cape Town var þar í 9.sæti í heiminum. Cape Town er mjög örugg borg fyrir ferðamenn og kom það mér á óvart

þar sem maður var kannski með fordóma áður en maður mætti. Hins vegar er þar hverfi í borginni þar sem atvinnuleysi er hér um bil 100% og glæpagengi ráða ríkjum, eins og í fátækrahverfunum í Rio í Brasilíu. Ég fann samt aldrei fyrir óöryggi eða að það væri endalaust verið að reyna selja manni eitthvað dót. Það voru allir virkilega vingjarnlegir og það var eiginlega það besta við ferðina.“ „Margir Íslendingar halda að þeir séu ekki með fordóma en svo eru þeir oft innbyggðir í manni, fólk heldur oft að allt sé betra á Íslandi þó það hafi kannski aldrei komið á framandi staði. Þegar maður sér þetta með eigin augum breytir það miklu hvernig maður lítur á hlutina. Zimbabve var kannski undantekning, þar sá maður vel hvernig ástandið var þar. Daginn áður en við fórum yfir landamærin voru þar mótmæli þar sem kveikt var í byggingum og fólk lét lífið. Herinn var áberandi á götum úti þannig að það

var eldfimt ástand þar sem samkvæmt heimamönnum er bara að versna. Ríkið hefur verið fátækt lengi, þar ríkir óðaverðbólga og opinberir starfsmenn fá aldrei launin sín á réttum tíma, en hermenn fá þó alltaf greitt á réttum tíma vegna þess að ríkið telur þá ómissandi í núverandi ástandi.“

Hristi vel upp í rútínunni

Vissulega upplifi og lærði Bjarni margt í ferðalaginu. Hann vill þó ekki detta í klisjugryfjuna og kalla sig breyttan mann. „Svona upplifun er kannski ekki alveg þannig að hún breyti manni um alla tíð en hins vegar lætur ferðalagið mann staldra aðeins við og hugsa. Klisjan um að svona ferð breyti manni er að einhverju leyti rétt en ekki kannski eins mikið og maður vill og áhrifin eru mislengi að dvína. Maður er svo fljótur að venjast lífinu á Íslandi aftur. Það er gott að fara í svona ferðir annað slagið til að hrista aðeins upp í rútínunni sem maður á það til að festast í. Það dugir ekki að fara í eina svona ferð, maður verður að stunda þetta ef maður hefur nægan áhuga. Ég stefni allavega á að fara í fleiri svona ferðir og fara um Asíu og S-Ameríku.“ Það var vetur í Afríku þegar Bjarni fór út. Hitastigið var því oft 3540 stig á daginn en um nóttina var kannski við frostmark. Hann lét það þó ekki aftra sér frá því að gista undir berum himni í Kalahari eyðimörkinni í Botswana, sem er stærsta saltslétta í heiminum. „Ég var sá eini í hópnum sem svaf undir berum himni, í mörgum peysum og í svefnpoka á meðan hinir gistu í bílnum. Það var ansi mögnuð upplifun, það er engin ljósmengun þannig að maður sér allar stjörnurnar skína skært. Þarna liggur maður aleinn í afslappandi umhverfi og sofnar í algjöru hljóði. Þarna náði maður að kúpla sig alveg út og finna streitu undanfarinna mánuða líða úr sér. Ég var búinn að vera á fullu fyrir ferðina í skóla og pólitíkinni og fannst alveg fínt að losna við áreitið þaðan og hlusta ekki á fréttirnar á hverjum degi,“ segir ævintýramaðurinn Bjarni að endingu. eythor@vf.is


LJÓSANÆTUR TILBOÐ 20% afsláttur af öllum ljósum GERMANIA HILLUEINING

30% AFSLÁTTUR

VALIN SÓFASETT Á SÉRSTÖKU TILBOÐI

20-40%

DREAMWORLD RÚM

30% AFSLÁTTUR

afsláttur af allri gjafavöru TJARNARGÖTU 2 • 230 REYKJANESBÆ • S: 421-3377 • WWW.BUSTOD.IS •

BÚSTOÐ EHF

OPNUN YFIR LJÓSANÓTT: Miðvikudag - föstudag 10-22, laugardag 11-18, sunnudag 13-16


30

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

BROS KOSTAR EKKI NEITT

●●Angela Amaro ólst upp á kaffihúsi í Portúgal ●●Nú rekur hún hið líflega Ráðhúskaffi í hjarta Reykjanesbæjar

Það er alltaf notaleg stemning á Ráðhúskaffi Reykjanesbæjar hjá Angelu Amaro. Hún þekkir nánast alla sína gesti persónulega og þykir vænt um marga þeirra. Fastagestir eru á öllum aldri og koma margir daglega til þess að sækja í veitingar eða góðan félagsskap. Angela fluttist til Íslands árið 1995 aðeins 21 árs gömul frá heimalandi sínu Portúgal. „Ég hafði heyrt um saltfiskinn frá Íslandi en vissi annars ekkert um landið og hvar það var á korti hvað þá hvar Patreksfjörður væri staðsettur,“ segir Angela og hlær en hún fluttist fyrst vestur á firði til þess að vinna í fiski. Hún ólst upp í Almeirim sem er klukkustundar fjarlægð frá Lissabon. Svæðið er mikið vínræktarhérð og þar búa um 20 þúsund manns. Angela á ekki langt að sækja kaffihúsaandann en foreldrar hennar ráku kaffihús í bænum. „Ég var 12 ára þegar þau opnuðu staðinn og ég hélt mjög mikið til þar. Síðar meir vann ég þar og sá m.a. um bókhaldið og eiginlega sinnti allflestu. Þegar ég setti á fót Ráðhúskaffi var reksturinn því ekki alveg nýr fyrir mér. Móðir mín er kokkur og ég lærði heilmikið af henni á kaffihúsinu í Portúgal, bæði bakstur og eldamennsku,“ segir Angela. Kaffi er alveg heilagt í Portúgal að sögn Angelu. Fólk sækir mikið í kaffihúsin og er algengt að fólk hittist fyrir vinnu, eftir hádegismat og á kvöldin og fái sér einn espresso. Fólk er ekki að fá sér kaffi heima heldur lítur fólk á þetta sem félagslegan viðburð að fá sér kaffi. Hvernig var fyrsta árið á Íslandi? „Ég bara ákvað strax að hugsa „hingað er ég komin til að vinna og reyna safna mér pening“. Ég ætlaði síðan aftur út og hefja nám en hér er ég enn. Ég fann fljótlega hvað mér fannst gott að vera hér. Ég dvaldi í tvö ár á Patreksfirði og flutti síðan til Hafnarfjarðar 1997. Þar kynnist ég eiginmanni mínum sem er einmitt frá Patró. Þegar hann klárar námið sitt fær hann vinnu í Reykja-

nesbæ og því flytjum við hingað ári seinna. Við eigum bæði eitt barn fyrir og saman eigum við son.“

Lærði íslensku á leikskólanum

Angela var ekki ýkja góð í ensku þegar hún fluttist hingað og alls ekki í íslensku. Tungumálið kom þó þegar hún fór að vinna með börnum. „Þegar ég kom til Reykjanesbæjar bauð mér yndisleg kona að koma í starfskynningu á leikskóla. Þar var ég í mánuð og hjálpaði sú reynsla mér að ákveða að taka næsta skref. Hjallatún opnaði stuttu seinna og sótti ég um starf þar sem ég fékk. Það reyndist mér vel upp á samskipti og að læra tungumálið. Ég lærði líka langmest um íslenska menningu á leikskólanum. Ég var eini útlendingurinn að vinna þar og þess vegna töluðu allir við mig íslensku. Með því komst mun auðveldara inn í samfélagið. Ég fékk aukið sjálfstraust við það það að læra hversu sjálfstæðar konurnar eru á Íslandi.“ Eftir tímann á leikskólanum fékk Angela vinnu í Fríhöfninni sem var mjög skemmtileg að hennar sögn. „Ég kunni vel við mig í flugvallarumhverfinu en það var svolítið erfitt að vera í vaktavinnu samhliða fjölskyldurekstri.“ Nú eru komin þrjú ár síðan Angela tók við rekstri Ráðhúskaffis. Hún var við vinnu í Fríhöfninni þegar hún fékk óvænt tilboð sem hún gat ekki hafnað. „Mér fannst alltaf vanta kaffihús hér á svæðið og ég hafði alltaf hugsað mér að opna eitt slíkt, kannski vegna uppeldisins. Svo bara gerðist það allt í einu. Axel Jónsson hjá Skólamat hafði samband við mig til þess að reka

kaffihúsið. Ég ákvað að taka sénsinn og hella mér út í þetta, ég fékk góða tilfinningu fyrir þessu og þurfti ekki mikið að hugsa mig um. Það þýðir þó ekki að þetta hafi verið auðvelt að byggja upp fyrirtækið. Ég tók svo við af Axel í mötuneytinu hér í Ráðhúsinu og er að útbúa mat fyrir um 30 starfsmenn á dag í hádeginu, og svo kemur fólk að utan einnig í hádegismat,“ segir Angela og brosir.

Oreo frappó er langvinælast

Það langvinsælasta á kaffihúsinu er Oreo frappuccino sem er kaldur drykkur með mulnum ís, með eða án kaffiskots. Ofan á fer þeyttur rjómi og mulið Oreo kex. Unga fólkið er sérstaklega hrifið af þessum drykk og er gangandi auglýsing fyrir Angelu. Annað sem er vinsælt eru quesedila sem eru tortillapönnukökur með kjúkling, grænmeti og sósu. „Ég reyni að hafa matinn í hollari kantinum en það verða alltaf að vera sætindi líka. Pastel de nata eru vinsælustu kökurnar í Portúgal og þær geri ég alltaf og sel á laugardögum á kaffihúsinu. Í Lissabon er vinsælasti staðurinn sem gerir þessar kökur að selja um fimm þúsund stykki á dag. Það er erfitt að finna rétta smjördeigið til þess að útbúa kökurnar þannig að ég hef verið að þróa það síðustu tvö ár. Kökurnar eru ekki svo dísætar, eru með mjúku kremi í miðjunni sem samanstendur af eggjarauðu, sykri, rjóma og fer svo í ofn. Nú eru kökurnar orðnar ansi vinsælar hér og fólk sem kemur sérstaklega hingað á laugardögum til þess að fá sér. Ég þarf þó ansi oft að útskýra fyrir fólki hvað þetta er og margir taka

■■Skúli Magnússon er einn af tryggum fastagestum Angelu en hann er sérstaklega hrifinn af súpunum hennar. „Ég kem hérna mjög oft en stundum er maður að sinna hinum ýmsu verkefnum þannig að ég kem ekki á sama tíma alltaf. Oftast kem ég seinnipartinn í kaffitímanum en ef ég er á ferð niðri í bæ þá kem ég fyrr og fæ mér súpu. Það eru alveg frábærar súpur hérna. Angela er svo liðleg og þægileg og hún dregur að sér fólk. Hún er svo almennileg og geislar af henni vinsemd. Viðmót hennar gerir staðinn svo góðan og dregur fólk að,“ sagði Skúli í samtali við blaðamann áður en hann gæddi sér á súpunni. sénsinn og smakka. Svo eru nokkrir Portúgalar í Reykjavík sem eru farnir að panta hjá mér nokkur stykki um helgar. Ég væri til í að bjóða uppá meira af portúgölskum veitingum og hef rætt það við móður mína sem er kokkur. Við sjáum til hvernig það fer en það væri gaman að hafa einhverja sérstöðu.“

Alltaf síbrosandi

Ráðhúskaffi er með mikið af fastagestum og mikið um að eldri borgarar komi í hádeginu, fái sér að borða, lesi blöðin og skoði mannlífið í ráðhúsinu og bókasafninu. „Ég spjalla við marga kúnnana og hef kynnst fullt af góðu fólki sem heimsækir kaffihúsið. Þess vegna finnst mér ekkert leiðinlegt að vera vinna til kl.18 alla daga. Mér finnst mikilvægt að hafa gott viðmót í þjónustunni. Ef ég brosi ekki, þá er eitthvað alvarlegt í gangi. Það sem gleður mig mest er þegar yngstu

fastagestirnir, tveggja til þriggja ára börn koma inn, kannast við mig og vinka mér eða knúsa mig. Ferðamenn hafa verið duglegir að koma í sumar, þá koma sumir eftir að þeir lenda en kíkja svo aftur til mín í lok ferðar til þess að segja bless.“ Angela stefnir á að halda ótrauð áfram í rekstrinum og bæta frekar í. Til stendur að móðir hennar komi henni til aðstoðar innan skamms og þá verður aukið við úrval veitinga. „Mér líður vel hér og langar að halda áfram að reka kaffihúsið. Fyrir utan alla góðu kúnnana er þetta líka ofboðslega góður hópur af fólki sem vinnur hér í húsinu, á bókasafninu og ráðhúsinu. Ég vil koma vel fram við alla sem koma í húsið, hvort sem það eru mínir viðskiptavinir eða hælisleitendur sem eru að hitta starfsfólk hjá Reykjanesbæ. Ég brosi til allra, bros kostar ekki neitt.“ eythor@vf.is


Gleðilega hátíð

Ljósanótt

VELKOMIN Á

LJÓSANÓTT

- Tilboð gilda í BYKO Suðurnesjum 30. ágúst - 12. september -

kr.

88949280 Almennt verð: 9.995 kr.

SERÍUR

-25%

PERUR

-30%

5.595

kr.

-30%

51124015 Almennt verð: 7.995 kr.

-20% ULTRAGLOZZ bón, 250ml.

1.836

kr.

90522343 Almennt verð: 2.295 kr.

BÍLAHREINSIVÖRUR

-20% Skemmtum okkur saman á ljósanótt

-30%

HANDKYNDLAR 3 stk.

555

KERTI OG LUKTIR

LED KASTARI 10w IP65.

fsláttur kaa

u

7.495

-25%

5% a

ÚTISERIA TWILIGHT 20 ljósa LED warm.

kr.

42303918 Almennt verð: 795 kr.

LJÓS

-30% -20%

ÞVOTTAKÚSTUR 28 cm.

3.995

kr.

41312250 Almennt verð: 4.995 kr.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook