Skip to main content

34 tbl 2016 - Seinni hluti

Page 1

32 Keflvíkingurinn Magnús Kjartansson er aðal númer Ljósanætur 2016 og kemur fram að minnsta kosti fjórum sinnum á hinum ýmsu viðburðum hátíðarinnar. Magnús er einn af þekktu poppurum bítlabæjarins og landsins og er höfundur margra þekktra laga sem landsmenn þekkja. Fréttamenn Víkurfrétta hittu Magnús og báðu hann að rifja nokkur atriði úr sögu þessa rúmalega sextuga bítils og tónlistarmanns. Og við tókum rölt um hluta gamla bæjarins með popparanum.

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Keflavíkurrölt með

MAGGA KJARTANS Magnús lyftir höndum með Kirkjuteig 13 í baksýn.

Gamlar myndirn eru úr tónlistarskólanum. Ungir peyjar blása og spila á hljóðfæri undir stjórn Herberts Hriberschek skólastjóra.

Upphafið við Kirkjuteig Magnús flutti ungur á Kirkjuteig 13 í Keflavík en á því heimili ólst upp stórfjölskylda hjónanna Margrétar Gauju og Kjartans Finnbogasonar. Magnús var elstur sex systkina og við hittum kappann í boganum á bakvið Keflavíkurkirkju og báðum hann að rifja upp gamla tíma í tengslum við tónlistina. „Hingað á Kirkjuteiginn flutti stór hópur af fólki á svipuðum aldri og með mörg börn. Krakkarnir hér urðu miklir félagar, m.a. við nokkrir strákar hér í götunni. Við fengum inni í bílskúr og byrjuðum að spila en svo vorum við einnig duglegir í tónlistarnámi, vorum t.d. margir í lúðrasveit sem var stofnuð í barnaskólanum. Þetta var mikil upplifun man ég,“ rifjar Magnús upp og bætir við að í bænum hafi verið tónlistarskóli og mikið tónlistarlíf. „Við vorum margir sem spiluðum uppi á Keflavíkurflugvelli, með „bigbandi“ sem skipað var nokkrum ágætum bæjarbúum hér í bæ. Við ungu strákarnir gengum til liðs við félagana í því. Ég var 12-13 ára, blés í lúðra og bar mig mannalega með körlunum.“ Hafði Kaninn áhrif á tónlistarmenninguna niðurfrá? „Jú, í gegnum útvarpið og sjónvarpið og auðvitað í gegnum vinnuna sem margir fengu við það að spila í klúbbnunum á Vellinum.“ Fyrsta hljómsveitin sem Magnús var í hét Ecco og var stofnuð af honum, Ólafi Kjartans, Jónasi Hördal og Þorsteini Ólafs, síðar markverði Keflvíkinga. Þá spilaði ég á bassa, Jónas á trommur, Óli á gítar og Steini á hljómborð og svo fengum við stundum að æfa uppi á lofti hjá syni héraðslæknisins (Óla) en afi hans bjó þar og átti forláta útvarp sem við gátum allir stungið í samband við og varð þannig fyrsti magnarinn okkar. Við spiluðum mikið í æskulýðsheimilinu

Magnús við Ásabrautina.

og á skólaböllum. Við áttum í mikilli samkeppni við aðra skólahljómsveit sem hét Skuggar. Þeir voru kurteisu strákarnir á meðan við vorum aðeins „aggresífari,“ segir Magnús en þremur árum síðar, þá 15 ára, gengur Magnús í hljómsveitina Óðmenn. „Þá þurfti ég undanþágu til að spila með bandinu svona ungur því við vorum að spila á veitingahúsum í Reykjavík.“ Þegar Óðmönnum sleppir tekur við hljómsveitin Júdas úr Keflavík sem varð mjög vinsæl en í henni voru allt heimamenn með Magnúsi; Finnbogi bróðir Magnúsar, Hrólfur Gunnarsson og Vignir Bergmann. Þeir hafa undanfarin ár mætt galvaskir og spilað á dansleik á Ránni á Ljósnaótt. Þannig lifir Júdas ennþá. Ekki varð næsta grúppa Magnúsar minna vinsæl en hún hét Trúbrot. Það var tímamóta hljómsveit og varð sú vinsælasta um tíma á landinu. „Það voru þung spor,“ segir Magnús sem skildi þá við bróður sinn Finnboga og hljómsveitina Júdas en í góðu auðvitað en þeir bræður hafa stigið tónlistartaktinn mikið saman alla tíð. Maggi rifjar það upp að þegar hann hafi gengið í Óðmenn hafi hann spilað á bassa en Finnbogi á hljómborð. „Þá fékk ég hljómborðið hjá bróður og hann fékk bassann og þannig hefur það verið síðan,“ segir hann og hlær. Þitt líf er bara tónlist og mörgum finnst þú kunna best við þig á sviðinu, spilandi og segjandi sögur á milli laga? „Já, ég þakka mömmu það að ég hef aldrei verið stressaður á sviði því hún spilaði oft undir með mér á píanó þegar ég var í tónlistarskólanum fyrstu árin. Ég var bara að fara inn á svið með mömmu. Hef þess vegna aldrei kviðið því að fara á svið og kann vel við mig þar.“ Tónlistarlíf hefur alltaf verið mjög öflugt í Keflavík og nágrenni og Magnús segir að það hafi verið haldið vel utan um það. Magnús fer fimmtíu

ár aftur í tímann og segir svo: „Vigdís gamla sýslumannsfrú stjórnaði tónlistarfélagi, kórstarf var mikið og almennur söngáhugi. Þetta hefur einhvern veginn alltaf verið blómlegt. Við þurftum að æfa og það var skilningur á því. Við fengum að nota húsakynnin sem voru til staðar á þeim tíma og húsverðirnir voru okkar bestu vinir. Þú verður að æfa þig. Það er grunnurinn að því að verða góður. Það er bara þannig og við gerðum það,“ segir Magnús. Það hefur löngum verið um það rætt hvað margir Suðurnesjamennirnir urðu mjög þekktir tónlistarmenn og popparar. Magnús jánkar því og segir að í næstu kynslóð á undan sér hafi verið kappar á borð við Gunnar Þórðarson og Þóri Baldursson að ógleymdum Rúnari Júlíussyni. Blaðamaður spyr hvort það hafi ekki verið rígur á milli þeirra töffarana? „Nei, þetta var allt í mesta bróðerni og við Rúnar vorum miklir vinir. Hann var eldri en ég og hann tók mig að sér, það var mér ómetanlegt hvað hann hélt utan um mig og hjálpaði mér mikið. Þannig var andinn á þessum tíma og birtist í fleiri myndum. Við strákarnir fengum t.d. ungir vinnu hjá körlunum sem voru í lúðrasveitunum og voru með fyrirtæki, hjá Ragga bakara til dæmis. Það var rík samstaða í Keflavík og góð tengsl á milli manna sem hjálpuðu til í þessu öllu.“

Endaði í partý í horninu þar sem hann fæddist Í viðtali okkar við Magnús vildi hann sýna okkur hvar hann fæddist. „Ertu til í að smella mynd af mér þar. Mig langar að eiga hana,“ sagði hann. Við fórum að Ásabraut 9 í Keflavík og röltum að húsinu sem er tvíbýli. „Nei, ég man nú ekki mikið eftir þessum tíma enda var ég hér bara fyrstu 3-4 ár ævi minnar en man þó þegar ég var einu sinni sendur út í búð að kaupa kaffibæti fyrir mömmu. En svo, ótrúlegt en satt, kom ég einu sinni í partý eftir ball í Stapa í húsið sem ég fæddist í. Mér þótti það ansi skemmtilegt. Settist út í hornið þar sem ég fæddist.

Var með vangaveltur og þagnaði um stund, sem gerist nú ekki oft. Hér fæddist ég, hugsaði ég með mér. Það er gaman að rifja þetta upp.“

Þú spilaðir mikið í Stapanum sem nú er orðin Hljómahöll? „Mér þykir afar vænt um Stapann og Hljómahöllina. Þetta er gríðar mikil lyftistöng og mjög jákvætt. Ég veit að þetta var dýrt en mér finnst þetta stórkostlegt hvernig til hefur tekist. Aðstaðan þarna er frábær og í samræmi við hugsunina í bænum.“ Ásabraut í Keflavík í byggingu.


fimmtudagur 1. september 2016

33

VÍKURFRÉTTIR

Upp að

ljósastaur sér hallaði...

Fyrir tveimur árum var settur upp stefnumótastaurinn á gatnamótum Hafnargötu og Tjarnargötu í Keflavík. Hugmyndin segir Magnús vera frá Einari Bárðarsyni en í laginu segir: … og upp að ljósastaur sér hallaði og um ennið hélt… „Það varð til þess að menn fóru að velta því fyrir sér hvar ljósastaurinn væri því það var saga eða ævintýri úr raunveruleikanum á bakvið lagið Skólaball sem ég samdi. Ég sagði Einari frá því að ævintýrið hafi gerst einhvers staðar á Hafnargötunni, líklega á þessum gatnamótum Hafnargötu og Tjarnargötu. Einar lærði markaðsfræði í Arizona í Bandaríkjunum en í gömlum smábæ þar er stytta og skilti um frægt lag frá hljómsveitinni Eagles. Þangað flykkist fólk og lætur mynda sig. Hugmyndin er fengin þaðan þó útfærslan sé ekki alveg eins. Einar sá þarna einhver líkindi með þessari hugmynd. Ég vona bara að fólki finnist þetta skemmtilegt og að staurinn fái að að standa eitthvað. Rúnturinn í gamla daga var á Hafnargötunni og rómantíkin í loftinu. Ég fann mér góðan lífsförunaut á Hafnargötunni. Mína góðu konu. Það er mikilvægt að eiga eina slíka,“ segir Magnús þegar hann lætur hugann reika til baka. Magnús flutti frá Keflavík rúmlega tvítugur og hefur því búið meirihluta ævinnar einhvers staðar annars staðar en þegar hann er spurður út

Magnús við staurinn. Til vinstri er mynd frá Arizona og neðar er gömul mynd af Hafnargötunni sem Magnús ræðir um.

í það segir hann ræturnar alltaf vera í Keflavík. „Ég flutti rúmlega tvítugur og hef verið á flandri síðan, út af vinnunni aðallega. En ég er alltaf Keflvíkingur, Suðurnesjamaður fyrst og fremst og nýt þess að vera innan um Suðurnesjamenn. Kann

að meta húmorinn og gáskann. Ég held fast í mínar rætur, í mína gömlu félaga og vini. Er með kór á svæðinu og kem því vikulega í gamla bæinn minn til æfinga og svo hitti hér oft vini og ættingja.“

KEFLVÍKINGAR Á STÓRA SVIÐINU Í gamla ungmennafélagshúsinu í Keflavík á unglingsárum okkar manns æfðu hljómsveitirnar þess tíma, Rofar, Ecco, Júdas og Hljómar. Nafnið Ungó er þarna ennþá á húsinu en það gegnir öðru hlutverki í dag. Minna um dans. Meira um ís og nammi, pulsur og borgara.„Hér var mikið fjör. Ungó og Stapinn slógust um kúnnana, sem

endaði með því að Stapinn lagði þetta undir sig.“ Hvernig horfir þú á gamla bæinn sem hefur þróast mikið á undanförnum árum og áratugum? „Mér finnst gamli bærinn minn yndislegur og hér hefur verið jákvæð og glæsileg uppbygging. Ég vona að bæjarbúar láti ekki flugvélahljóð nútímans fara í sig. Það eru margar stór-

borgir með flugvellina alveg ofan í sér. Bara kaupa sér eyrnatappa,“ segir Maggi og hlær en hann hefur aldrei verið skoðanalaus. Við enduðum bæjarröltið með Magnúsi með því að spyrja hann út í Ljósanóttina 2016. Hann verður í hlutverki nær alla vikuna með mörgum aðilum. Magnús mun eiga eitt af upphafsat-

Magnús á æfingu með Sönghóp Suðurnesja.

riðum Ljósanætur með Sönghópi Suðurnesja en kórinn var í Keflavíkurkirkju á miðvikudagskvöld og verður svo aftur á laugardag og um kvöldið með Magnúsi. „Það er mjög skemmtilegt á Júdasarböllunum sem við höfum haldið undanfarin ár á föstudagskvöldinu á Ránni. Á stóra sviðinu á laugardagskvöldinu mun ég með aðstoð

Þetta er töffarinn Magnús Kjartansson fyrir ball með hljómsveitinni Júdas í „gamla daga“.

stórrar hljómsveitar og vina minna eins og Gunnars Þórðarsonar og Þóris Baldurssonar, troða upp og leika öll mín helstu lög í gegnum tíðina. Sviðið verður troðfullt af góðum Keflvíkingum. Það er mikið til af þeim. Ég vil endilega sýna þá. Gamlar og nýjar stjörnur,“ sagði Magnús áður en hann dreif sig á kóræfingu með sönghópnum sínum.


34

VÍKURFRÉTTIR

Hin 24 ára gamla Steinunn Ósk Valsdóttir er orðin hálfgerð Snapchat stjarna þar sem um 4000 manns fylgjast með henni á degi hverjum. Þar má fylgjast með henni í daglega lífinu með tvíburastrákunum sínum eða að farða sig fyrir framan spegilinn heima. Keflvíkingurinn Steinunn byrjaði eins og flestir að nota sitt persónulega Snapchat fyrir vini og kunningja en eftir að hún fór að starfa hjá vinkonu sinni sem rekur snyrtistofuna- og verslunina Deisymakeup, þá fóru þær að hugsa um leiðir til þess að vekja athygli á sér og vörunum sínum. „Ásdís byrjaði á Snapchat að sýna farðanir og vörur og við sáum fljótt hvað það fékk góð viðbrögð. Ég ákvað að byrja að gera það sama og tengja það við bloggið mitt, en Snapchatið fór að verða mun vinsælla en bloggið þar sem margir eru of óþolinmóðir til að bíða eftir nýrri bloggfærslu og vilja sjá allt strax. Ef maður nýtir þessa tvo miðla saman, setur inn bloggfærslu og segir svo frá henni á Snapchat eru miklu meiri líkur á að fólk lesi bloggið,“ segir Steinunn sem er með eigin bloggsíðu, steinunnosk.com en bloggar meira þessa dagana á mamie.is sem er mömmu- og lífstílsblogg nokkurra ungra kvenna.

ÍSAK ERNIR KRISTINSSON

4.

GEFUR KOST Á SÉR Í

SÆTI

Í PRÓFKJÖRI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í SUÐURKJÖRDÆMI

@isakkristins

fimmtudagur 1. september 2016

SNAPPIÐ ORÐIÐ EINS OG

RAUNVERULEIKASJÓNVARP Fær um 30 spurningar á dag

Snapchat Steinunnar hefur aldrei verið vinsælla en einmitt núna og eru um fjögur þúsund manns sem fylgjast með myndböndunum hennar. Þar sýnir Steinunn aðallega frá því þegar hún er að farða, kynnir nýjar förðunarvörur og fatnað, en einnig frá daglegu lífi sínu sem tvíburamamma. „Það er oftast frekar tilvijanakennt hvað ég set inn á Snapchat, þetta er bara eitthvað sem mér dettur í hug hverju sinni. Ég er oft með sýnikennslu í förðun, stundum er ég á djamminu með vinkonum mínum, aðra daga sýni ég aðeins frá fjölskyldulífinu.“ Steinunn fær að eigin sögn rosalega mikil viðbrögð frá fylgjendum sínum á Snapchat og fær um 30 spurningar á dag í gegnum forritið þar sem fólk er að spyrja um hitt og þetta. „Þetta eru að mestu leyti stelpur á mínum aldri en svo hef ég heyrt um kærasta stelpna sem langar kannski í eitthvað af þeim vörum sem ég er að sýna. Það leiðinlegasta við Snapchat er að þetta er frekar ópersónulegur miðill frá minni hlið, ég sé bara nöfn þeirra sem eru að fylgjast með mér og senda mér skilaboð en engar myndir.“

Skiptir mjög miklu máli að vera heiðarleg

Er fólk að þekkja þig út í bæ sem fylgist með þér á Snapchat? „Já það kemur alveg fyrir. Ég fór til dæmis út að skemmta mér í Reykjavík um helgina og var í smá sjokki að finna fyrir því að einhverjir þekktu mig út frá Snapchatinu. Það er mjög gott að nota miðilinn til að kynna mig en ég er sjálf er að taka að mér farðanir og selja förðunarvörur og því er gott að geta nýtt sér Snapchat til að koma sér á framfæri og auglýsa. Einnig fæ ég sendar til mín vörur til að prófa eða fæ afslátt af vörum. Um daginn var ég í fataverslun þar sem

Stundum skammast ég mín fyrir hversu miklum tíma ég eyði í símanum. En svo lít ég á þetta þannig að síminn minn og Snapchatið séu hluti af vinnunni minni

ég tók myndbönd af mér að máta jakka sem mér fannst flottur og langaði í. Daginn eftir var jakkinn uppseldur og fékk ég þá góðan afslátt af vörum í versluninni. Ég er samt mjög hörð á því að mæla bara með vörum sem ég fíla virkilega sjálf. Sum fyrirtæki halda að maður taki við hvaða vörum sem er og auglýsi þær á snappinu en það virkar alls ekki þannig. Það skiptir mig mjög miklu máli að vera heiðarleg og ég myndi aldrei lýsa vöru á jákvæðan hátt ef ég væri ekki ánægð með hana sjálf,“ segir Steinunn.

Farin að segja bara „fokk it“

Eins og gefur að skilja fer mikill tími í að vera með símann á lofti allan daginn í öllum aðstæðum „Það fer alveg svakalegur tími í þetta og stundum skammast ég mín fyrir hversu miklum tíma ég eyði í símanum. En svo lít ég á þetta þannig að síminn minn og Snapchatið séu hluti af vinnunni minni. Suma daga kúpla ég mig út, maður þarf alveg á því að halda líka. Snapchatmiðillinn er í raun mjög steikt fyrirbæri, þetta er eins og raunveruleikasjónvarp. Mér hefði aldrei dottið það í hug þegar ég byrjaði með Snapchat að þetta myndi enda með þessu. En mér finnst þetta mjög skemmtilegt og það hefur verið þroskandi að þurfa að díla við alls konar hluti sem tengjast þessu, eins og að spá í hvað öðrum finnst um mann. Ég er farin að segja bara „fokk it“, þetta er bara ég að sinna því sem mér finnst skemmtilegt. Ef fólk nennir ekki að horfa á mig þá er auðveldlega hægt að eyða mér út. Það er alveg pottþétt fólk að fylgjast með mér sem þolir mig ekki, en það verður bara að hafa það, mér er alveg sama. Ég reyni auðvitað að vera ég sjálf og er alls ekki að reyna vera öðruvísi en ég er, en ég hugsa að maður setji sjálfan sig ómeðvitað í einhvern smá karakter.“

Takið mynd af merkinu og fylgið

Steinunnoskblog eythor@vf.is


Reykjanesbær 2016 Velkomin á björtustu fjölskylduhátíð landsins Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar verður haldin dagana 1. - 4. september.

Dagskrá á útisviði Föstudagur: Bæjarstjórnarbandið • Sólveig Lea og Jón Anton Mistery Boy • Trúbadorinn Heiður Laugardagur: Blönduð fjölskyldudagskrá á útisviðinu allan daginn Leikhópurinn Lotta • Dagný Halla • Danskompaní • Taekwondo • Skrímslin Bryn Ballett Akademían • Stórsveit Suðurnesja • Jóhanna Ruth Maggi Kjartans og ljóssins englar ásamt Gunnari Þórðar, Þóri Baldurs, Björgvini Halldórs og Stefaníu Svavarsdóttur • Páll Óskar!

Listsýningar um allan bæ og hin ómissandi Árgangaganga Tónlistarveisla • Kjötsúpa • Heimatónleikar • Sagnakvöld • Bryggjuball Með blik í auga - Hvernig ert´í kántrýinu? • Unglingaball • Söguganga Bíla- og bifhjólasýning • Menningarveisla í Höfnum Harmonikuball • Leiktæki • Hoppukastalar • Lína langsokkur Skessulummur og dúndur Ljósanæturtilboð í verslunum. Sjá dagskrá á ljosanott.is HS Orka lýsir upp Ljósanótt með björtustu flugeldasýningu landsins. Landsbankinn er aðalstyrktaraðili Ljósanætur.

Láttu sjá þig!

ljosanott.is


36

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Það þekkja allir Svarta dauða orðið og vekur bílinn athygli hvert sem hann fer. Um er að ræða 25 ára gamlan Scania trukk sem Garðari þykir orðið mikið vænt um. Ljósmynd: Eyþór Sæm.

Litla dæmið!

Njarðvíkingurinn Garðar Viðarsson hefur verið ansi virkur á Snapchat frá því að samskiptamiðillinn fór að ryðja sér til rúms. Hann gengur þar undir nafninu iceredneck, en hann viðurkennir fúslega að vera dálítill „redneck“ í sér. Tæplega 1500 manns fylgja Garðari á Snapchat þar sem hann lætur jafnan allt flakka. Hann starfar sem trukkabílstjóri og snappar duglega af ævintýrum sínum og Svarta dauða, sem er dyggur fákur Garðars. Hann notast mikið við frasa sem eru orðnir nokkuð vinsælir meðal þeirra sem fylgjast með honum, en hann og vinir hans hafa notað frasana í mörg ár. Þannig er til dæmis orðið nokkuð algengt að sá sem þetta skrifar heyri einhvern segja „litla dæmið,“ yfir einhverju sem þykir áhugavert. „Maður er búinn að fá fréttir af því að þetta sé orðið notað mikið. Ég er reyndar orðinn frekar þreyttur á því að nota það. Það þarf að vera eitthvað helvíti flott til þess að vera litla dæmið núna.“

Ekkert feiminn við myndavélina

Garðar segist hafa gripið Snapchat á lofti mjög fljótlega. „Ég er ekkert feiminn við myndavélina og tók þetta bara strax með mér. Þetta er eins og páfagaukur á öxlinni á mér og ég snappa mest allt sem ég geri.“ Það getur verið mikil vinna að framleiða allt þetta efni fyrir Snapchat og það kemur fyrir að Garðar er snapp-latur eins og hann orðar það. „Þá hefur fólk oft bara samband og fer fram á það að maður komi nú með snöpp.“ Þetta er stíf dagskrá en Garðar byrjar daginn oftast með kaffibolla og snappi og svo býður hann góða nótt í lok dags. Allt þar á milli fær nánast líka að fljóta með. „Stundum hef ég gaman af þessu og stundum er maður ekki að nenna þessu enda talsvert áreiti. Ég fór til dæmis að skemmta mér síðustu helgi og það var enginn friður, það er alveg legið í manni,“ segir Garðar og hlær. Hann er einlægur og hreinskilinn á miðlinum og setur sig ekki í neinn karakter. „Ég er bara sá sem ég er. Ég er ekki að bæta neinu við eða halda neinu aftur. Þetta eru bara hlutir sem ég er að gera og takast á við og svo djóka ég bara í kringum þetta. Ég er

með svolítið svartan húmor en maður passar sig að vera ekki að særa fólk. Stundum er maður á bremsunni.“ Á þessu ári hefur hann orðið gríðarlega vinsæll og margir fylgjendur bætast við á hverjum degi. „Þegar ég er á ferðinni að lesta á bílinn í Reykjavík þá eru meira og minna allir vörubílar í borginni sem flauta á mig og heilsa mér. Það eru þónokkuð margir sem þekkja mig orðið.“

Alltaf til í góðan snapp-mat

Garðar er ekki mikið fyrir það að sitja heima og skoða lófana á sér. Hann verður alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Úr þessum ævintýrum hans verða oft til ansi góðar sögur fyrir Snappið. „Ég hugsa stundum að eitthvað sé flottur snapp-matur. Ef við félagarnir eru eitthvað að bauka og einhver fær góða hugmynd sem er góð á snappið, þá er ég allur inn.“

Fær ótrúlegt magn af grill og bjór snöppum

Garðar er líka duglegur að standa við grillið og matreiða pulsur og ýmislegt fleira góðgæti. Matnum skolar hann svo niður með einum ísköldum, eða tveimur. „Núna þegar fólk er að grilla sér pulsur og svona þá fæ ég að vita allt um þau mál. Ég fæ alveg geðveikt magn af grill snöppum á hverju kvöldi. Þá er búið að stilla upp bjór og svo opnar fólk grillið og segir litla dæmið,“ segir Garðar og skellir upp úr. „Ég hef bara gaman af þessu.“

Ég er með svolítið svartan húmor en maður passar sig að vera ekki að særa fólk. Stundum er maður á bremsunni Þegar Garðar er á ferðinni austur í Búrfellsvirkjun þangað sem hann flytur mikið af efni, þá staldrar hann oft við á Litlu Kaffistofunni og fær sér kjötsúpu. „Salan á kjötsúpunni hefur tvöfaldast út af mér. Nú eru allir trukkabílstjórarnir þar að fá sér súpu. Svo er Pulsubarinn á Selfossi lestaður af liði,“ segir Garðar en þar er hann vanur að stoppa á leiðinni heim. Það hefur komið upp að ýmis fyrirtæki hafa leitað til hans og vilja fá hann til þess að auglýsa fyrir sig vörur. Garðar segir að það væri ekki amalegt að fá styrktaraðila á snappið. „Iceredneck í boði Viking, það væri hrikalegt,“ segir Garðar að lokum og hlær dátt.

Takið mynd af merkinu og fylgið

Iceredneck

eythor@vf.is


VERIÐ VELKOMIN Í SPORTHÚSIÐ VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI YKKUR

HÓPTÍMAR Í SPORTHÚSINU • Spinning

• Zumba

• Aerial Yoga

• Tabata

• Pallar

• Tækjakennsla

• Fit Pilates

• Jóga með Bryndísi

• Rumenski

• Foam Flex

• Body Balance

• Hot Yoga

• Pilates • Focus Fit • Butt Lift


Glæný A Ð Í S F VE í n i m o k loftiðHUSID.IS T

.SPOR W W W

ÁRSKORT KR. 5.990,- Á MÁNUÐI AÐEINS 1. SEPTEMBER - 3. SEPTEMBER 2016

GLÆSILEGUR KAUPAUKI FYLGIR ÖLLUM NÝJUM 12 MÁNAÐA Á SKRIFTUM

Flugvallarbraut 701 | 235 Reykjanesbæ | 421-8070 | www.sporthusid.is


40

vera

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

TÍMINN STENDUR Í STAÐ

Í HÖFNUM ●●ÍBÚAR TAKA AUKINN ÞÁTT Á LJÓSANÓTT lTÓNLEIKAR OG LJÓSMYNDASÝNING UM HELGINA Hafnir vilja oft verða útundan þegar rætt er um Reykjanesbæ. Í dag eru íbúar Hafna 101 en voru 76 í árslok 2013. Menningarfélagið í Höfnum er tiltölulega nýtt af nálinni og hefur staðið fyrir menningartengdum viðburðum í Höfnum undanfarin misseri. Það er kannski stórt nafn á litlu félagi en fáir formlegir fundir hafa verið settir. Fólk hittist talsvert á göngu með hundana eða þegar verið er að slá blettinn. Nokkrir íbúar tóku sig saman í fyrra og héldu þá tónleika sem hluta af dagskrá Ljósanætur í Reykjanesbæ. Elíza Newman íbúi í Höfnum reið á vaðið ásamt Bjartmari Guðlaugssyni, en þau héldu tónleika í Kirkjuvogskirkju. Þeir voru svo vel sóttir að fólk þurfti frá að víkja. Einnig var haldin kaffisala og sagnastund í safnaðarheimilinu þar sem Hafnamennirnir Sigurjón Vilhjálmsson og Ketill Jósefsson sögðu sögur frá fyrri tíð í Höfnum. Þar var einnig fullt út úr dyrum og fólk þurfti að standa fyrir utan til þess að hlýða á sögurnar.

Árni Hjartarson segir gott að búa í Höfnum.

„Þetta er svolítið öðruvísi staður. Það er fínt að fara þennan rúnt á sunnudegi á Ljósanótt enda alltaf gaman að fara út í Hafnir. Þarna voru margir samankomnir sem hafa einhverjar tengingar við Hafnirnar,“ segir Árni Hjartarson íbúi í Höfnum. Hann er sjálfur Keflvíkingur en hefur búið í Höfnum síðustu níu ár. Þar byggði hann sér hús og unir sér vel í sveitasælu. „Það er mjög fínt að vera hér,“ bætir Árni við. „Það hefur svo lítið breyst frá fyrri tíð. Þetta eru nánast sömu húsin. Einhver eru farin og jafnvel önnur komin á sama stað. Þarna er mjög rólegt og fólk er útaf fyrir sig. Það sem er svo merkilegt við að skoða þessar gömlu myndir er hvað lítið hefur breyst,“ en

þar vísar Árni til gamalla mynda sem stendur til að sýna á Ljósanótt. Hafnabúar og aðrir Suðurnesjamenn hafa undanfarið gramsað í gömlu myndasöfnunum og grafið upp gersemar frá þessum litla en merka bæ. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og komu margar skemmtilegar myndir upp úr krafsinu. „Elsta myndin er frá 1901. Við ætlum að nota tækifærið á sýningunni og reyna að fá gesti til þess að bera kennsl á þá sem eru á myndunum,“ segir Árni. Mikill áhugi er fyrir tónleikum Valdimars Guðmundssonar í Kikjuvogskirkju en til stendur að halda tvenna tónleika. Allur ágóði af tónleikunum fer til styktar Kirkjuvogskirkju. Þar borga um 50 manns sóknargjöld ár

hvert og er reksturinn því nokkuð strembinn. Miðar á tónleikana verða til í forsölu í Safnaðarheimilinu í Höfnum á laugadag og sunnudag frá kl. 13-17.

Alls ekki afskekkt

Sú staðreynd að ekki sé nein þjónusta, verslun eða skóli í Höfnum er ekki að vefjast mikið fyrir íbúum. Árni segir að fjarlægðin sé ekkert til að setja fyrir sig. Þarna fer strætó um og börnin sækja skóla í 15 mínútna fjarlægð. „Þetta er ekki afskekkt en auðvitað smá rúntur. Vinir mínir sem búa á höfuðborgarsvæðinu eru yfirleitt lengur að fara með börnin sín á leikskóla og í skóla en við. Það er alltaf í hausnum á fólki að Hafnir séu


fimmtudagur 1. september 2016

Elsta myndin er frá 1901. Við ætlum að nota tækifærið á sýningunni og reyna að fá gesti til þess að bera kennsl á þá sem eru á myndunum

41

VÍKURFRÉTTIR

afskekktar. Maður finnur það alveg á fólki. Það er bara eitthvað viðhorf sem hefur verið lengi, það var margt í niðurníslu hér áður fyrr (og það hefur kannski áhrif á viðhorf fólks). Þetta er auðvitað ekkert fyrir alla,“ bætir Árni við.

Nokkrar merkilegar staðreyndir um Hafnir

Hafnir eru taldar hafa nafn sitt af tveimur fyrrum stórbýlum, Kirkjuhöfn og Sandhöfn sem stóðu talsvert sunnar en núverandi byggð, en þar var búseta fram á 17. öld. Á síðari tímum hafa Hafnir verið samheiti fyrir þrjú hverfi, þ.e. Kalmanstjörn, Merkines og Kirkjuvogshverfi.

Á 18. öld fór íbúum í þéttbýliskjarnanum í Kirkjuvogshverfi að fjölga og var mikill vöxtur fram á 20. öld. Þá var rekin mikil útgerð stórra áraskipa, bæði frá Kotvogi og Kirkjuvogi. Á 19. öld þótti Kotvogur eitt reisulegasta býli landsins. Blómaskeiðið tók enda er vélbátar fóru að ryðja sér rúms og fjarlægð á mið fór að skipta minna máli og krafa jókst um bætt hafnarskilyrði. Elstu ritheimild um byggð í Höfnum er að finna í Landnámu þar sem greint er frá því að Ingólfur Arnarson hafi gefið Herjólfi Bárðarsyni, frænda sínum og fóstbróður, land á milli Vágs og Reykjaness. Herjólfur var langafi Bjarna Herjólfssonar, sæfaranda, sem talið er að hafi ásamt áhöfn sinni,

fyrstur Evrópumanna litið meginland Norður-Ameríku augum. Á loftmynd sem skoðuð var árið 2002 kom glögglega í ljós skálalaga bygging á túninu fyrir aftan kirkjuna sem er dæmigerð fyrir elstu byggingar landsins. Vorið 2009 hófust eiginlegar fornleifarannsóknir og var grafið aftur á árunum 2011 - 2015. Vísbendingar eru um að skálinn sé frá allra elstu tíð en líklega hefur hann verið í notkun fram á tíundu öld. Sú tilgáta hefur verið sett fram að um sé að ræða rústir útstöðvar eins konar könnunarbúða líkt og á L‘Anse aux Meadows á Nýfundnalandi. Á 18. öld fór íbúum í þéttbýliskjarnanum í Kirkjuvogshverfi að fjölga og var mikill vöxtur fram á 20. öld. Þá

var rekin mikil útgerð stórra áraskipa, bæði frá Kotvogi og Kirkjuvogi. Á 19. öld þótti Kotvogur eitt reisulegasta býli landsins. Blómaskeiðið tók enda er vélbátar fóru að ryðja sér rúms og fjarlægð á mið fór að skipta minna máli og krafa jókst um bætt hafnarskilyrði. Kirkjuvogskirkja var byggð á árunum 1860-1861 og var vígð 26. nóvember 1861. Hún er elsta kirkja á Suðurnesjum. Kirkja hefur verið í Höfnum að minnsta kosti frá 14. öld en elsta ritheimild er frá árinu 1332. Miðaldakirkjan stóð hins vegar norðan Ósa en afar lítið er vitað um sögu hennar. Árið 1575 vísiterar Gísli biskup sóknina og þá er kirkjan komin á núverandi stað.


42

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Páll Óskar hefur ekki spilað í Stapanum síðan sýning um feril hans var sett þar upp fyrir einu og hálfu ári og hlakkar því mikið til Ljósanætur.

Hér má sjá Þorvarð ásamt hluta af Hippum í handbremsu, Stefáni “húsverði” Jónssyni og Ingibergi sem á æfingahúsnæðið sem sveitirnar nýta.

Hippar og hraustir menn í garðinum heima

ALGJÖR LÚXUS

AÐ KOMA FRAM Í STAPA

●●Páll Óskar kemur fram á útisviðinu eftir flugeldasýningu og á balli í Stapa Það verður mikið um glamúr og glæsileika á Pallaballi í Stapa á Ljósanótt. „Það er langt síðan ég hef verið á Ljósanótt og því hlakka ég mikið til,“ segir Páll Óskar sem kemur líka fram á útisviðinu eftir flugeldasýninguna á laugardagskvöld. „Þaðan hleyp ég svo í Stapann því ballið þar hefst stundvíslega á miðnætti. Þar massa ég þetta pásulaust til klukkan fjögur um nóttina.“ Með Páli Óskari á sviðinu verða dansarar, sem og bombur, blöðrur og tilheyrandi skraut. Sýningin „Páll Óskar - Einkasafn poppstjörnu“ hefur staðið í Rokksafni Íslands í Hljómahöll í eitt og hálft ár. Á næstunni verður skipt um tónlistarmann í brúnni og hefur umfang sýningarinnar um Pál Óskar verið

minnkað og hún færð á hina svokölluðu Gítarnögl í Rokksafninu, sem er upphækkaður pallur. Páll Óskar hefur ekki spilað í Stapanum síðan sýningin var opnuð á sínum tíma og hann segir því yndislegt að fá að halda ball núna þegar henni fari að ljúka. Hann segir ljósabúnað og hljómburð í Hljómahöllinni sem því besta sem gerist á landinu og því algjör lúxus að koma þar fram. Það verður í nógu að snúast hjá poppstjörnunni á laugardaginn því að fyrr um daginn syngur hann í brúðkaupi í Gaulverjabæ og á skemmtun í Garðabæ. „Andlegur og líkamlegur undirbúningur fyrir helgina er hafinn. Ég passa alltaf að sofa vel út, í það minnsta síðustu þrjá dagana fyrir

svona stóra törn.“ Laugardagarnir eru yfirleitt þétt bókaðir hjá Páli Óskari og þá vaknar hann klukkan átta og byrjar að hita sig upp og gera sig sætan. „Ég næ þessu alltaf ef ég fæ átta tíma svefn á sólarhring. Það er svo magnað að alltaf þegar ballið byrjar, jafnvel þó að það sé mikið álag á manni og mikið stress baksviðs, þá fær maður alltaf einhverja auka orku þegar talið er í fyrsta lagið. Þá kemur einhver orka sem maður vissi ekki að maður ætti til.“ Hann segir fólkið á ballinu gefa þessa orku, enda séu Pallaböll mikil gleðiböll. „Ég syng lög sem allir þekkja og geta sungið með. Í því liggur þessi ofsalega fallega orka.“ Miða á Pallaballið má nálgast á tix.is og hljomaholl.is

Hljómsveitirnar Hippar í handbremsu og Hraustir menn verða með létta tónleika í garðinum að Íshússtíg 7 á laugardeginum á Ljósanótt og áætla þeir að telja í um fjögur leytið. Hippar í handbremsu leika einungis frumsamið efni eftir Ingiberg Kristinsson en sveitin hefur ekki komið fram á opinberum vettvangi síðan elstu menn muna, að sögn hljómsveitarmeðlima. Hljómsveitina skipa Ingibergur Kristinsson á bassa, Magnús Garðarsson á trommur, Ólafur Ásmundsson syngur, Stefán Jónsson spilar á rhythma gítar og Þorvarður Ólafsson á Lead gítar. Þeir Ólafur og Þorvarður eru feðgar og fara tónleikarnir einmitt fram í Þorvarðshúsi sem nefnt er eftir afa Ólafs. Þorvarður segist hafa gengið með þá hugmynd í maganum undanfarin tvö ár að halda tónleika á ljósanótt en það hafi ekki orðið af því fyrr en nú. “Við ákváðum að láta slag standa núna og ég var einmitt að segja það

við pabba að það yrði örugglega troðfullt í garðinum heima svona miðað við viðbrögðin á FB sem hafa verið frábær.” Þorvarður leikur í báðum sveitum en hann á ekki langt að sækja tónlistarhæfileikana enda faðir hans Ólafur vel liðtækur á gítar og í söng en þeir leika einmitt saman í Hippum í handbremsu. En hvaðan kom hugmyndin? “Það vill nú bara þannig til að þessar hljómsveitir æfa báðar í skúrnum hjá honum Inga á Norðförðsgötu og því þótti ilvalið að skella saman í tónleika.” Hljómsveitin Hraustir menn er nýlega stofnað tríó sem spilar ábreiður af blúsi og rokki en meðlimir sveitarinnar eru Villi Guðmundsson á trommum, Sólmundur Friðriksson er söngvari og bassaleikari og aftur Þorvarður Ólafsson sem syngur og leikur á gítar. Það er því nokkuð ljóst að tónlistin mun óma í Gamla bænum á Ljósanótt.

Auglýsingasíminn er

421 0001

Hjallastefnuskólinn Akur Leikskólinn Akur auglýsir eftir körlum og konum til starfa, með leik- og eða grunnskólakennaramenntun. Einnig er óskað eftir fólki til starfa með aðra sambærilega menntun og/eða reynslu af starfi með börnum og ungmennum. Jafnréttisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir í hugmyndafræði Hjallastefnunnar, öllum börnum til hagsbóta. Hæfniskröfur og viðhorf: • Hæfni í mannlegum samskiptum • Gleði og jákvæðni • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð • Frumkvæði, áræðni og metnaður • Brennandi áhugi fyrir jafnrétti • Stundvísi • Snyrtimennska Áhugasamir hafi samband við skólastjóra Akurs, Guðrúnu Lilju Jónsdóttur á akur@hjalli.is eða í síma 421-8310. Um framtíðarstarf er að ræða Hlökkum til að fá umsókn frá þér!

Bílaleiga leitar eftir starfsfólki Við leitum að hressu, skemmtilegu og metnaðargjörnu starfsfólki til að vinna með okkur í ört vaxandi fyrirtæki í þjónustu við ferðamenn. Viltu starfa á vinnustað þar sem þú virkilega skiptir máli en ert ekki einn af 100? Leitað er að starfsfólki í fullt starf og hlutastarf. • Afgreiðsla bílaleigubíla • Þrif og umsjón bílaleigubíla • Húsasmiður eða aðila með sambærilega menntun/reynslu. • Bílasprautari eða aðila með sambærilega menntun/reynslu. Umsókn skal senda ásamt ferilskrá (CV) á:

starf@faircar.is

Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2016.


44

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Aragerði 16 og Hvassahraun 27

verðlaunuð í Vogum Aragerði 16 og Hvassahraun 27 hlutu umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Voga sem veittar voru á fjölsklylduhátíðinni í Vogum á dögunum. Viðurkenningarnar eru veittar af Umhverfis- og skipulagsnefnd Voga. Nefndin fór í vettvangsferð um sveitarfélagið og skoðaði garða og fyrirtækjalóðir með tilliti til fyrirmyndar ræktunar og umhirðu. Að vettvangsferð lokinni ákvað nefndin að veita tvenn verðlaun að þessu sinni. Umsögn umhverfis- og skipulagsnefndar með viðurkenningunum er eftirfarandi: Guðjón Sverrir Agnarsson og Eyrún Antonsdóttir, Aragerði 16 fyrir skemmtilegan garð sem sýnir áralanga natni eigenda við uppbyggingu gróðurs. Í garðinum er að finna einstaka tegunda fjölbreytni þar sem hver planta á sér sögu. Garðinum hefur á skemmtilegan hátt verið skipt upp í ólíka lundi sem skapa notalegt tækifæri fyrir eigendur til að njóta gróðursins sem best. Bjarni Róbert Kristjánsson og Arndís Helga Einarsdóttir í Hvassahrauni 27 fyrir vel heppnaða uppbyggingu. Á lóðinni hefur tekist að skapa einstakt samspil milli nýrra bygginga, gamalla garða og minja úr náttúrunni. Skemmtilegt flæði er á milli lóðar við aðal húsið og sjávarhúss er stendur neðar. Eigendum hefur tekist að nýta allt það besta sem umhverfið hefur upp á að bjóða um leið og grænir fingur fá að njóta sín innan um hraungert landslag.

Aragerði 16 í Vogum.

Hvassahraun 27 þar sem er einstakt samspil nýrra bygginga og gamalla garða ásamt minja úr náttúrunni.

VERÐLAUNAGARÐUR Í

HVASSAHRAUNI ●●Hjónin Arndís Einarsdóttir og Róbert Kristjánsson hafa á 16 árum skapað sér paradís við sjávarsíðuna

Arndís og Róbert búa við í Hvassahrauni og hafa þar ræktað fallegan garð við sjávarsíðuna. VF-myndir/dagnyhulda

„Hér ætlum við að bera beinin enda er þetta svæði okkar draumur,“ segir Arndís Helga Einarsdóttir en hún og eiginmaður hennar, Róbert Kristjánsson, hlutu á dögunum viðurkenningu frá Sveitarfélaginu Vogum fyrir fallegan garð. Þau búa í útjaðri sveitarfélagsins, nánar tiltekið í Hvassahrauni, húsaþyrpingunni í Kúagerði, sjávarmegin með Reykjanesbrautina. Í umsögn dómnefndar segir að á lóðinni hafi tekist að skapa einstakt samspil á milli nýrra bygginga, gamalla garða og minja úr náttúrunni og að skemmtilegt flæði sé á milli lóðar við aðal húsið og sjávarhúss er stendur neðar. Í gegnum tíðina hafa þau varið drjúgum tíma í garðinum sem er hinn glæsilegasti. Arndís segir hverfið í Hvassahrauni vera eins og sveit í borg. Það er skipulagt sem frístundasvæði og því sjá þau sjálf um að koma úrgangi á réttan stað og sækja póstinn sinn í Voga. Ekki er hægt að skrá

lögheimili sitt þar í dag en þau skráðu sig þar áður en skipulagið gekk í gegn. Arndísi og Róbert hafði dreymt um að búa á afskekktum stað og leituðu víða um land að hentugri jörð. „Við vildum búa með dýrum og rækta okkar eigið grænmeti. Við erum með vísi að grænmetisrækt núna og erum búin að taka upp spínat og brokkolí í sumar,“ segir Arndís.

Bjuggu í 15 fermetra bátaskýli

Jörðina í Hvassahrauni fengu Arndís og Róbert afhenta árið 2000. Þá var ekkert þar nema illa farið bátaskýli og hlaðnir garðar sem voru á kafi í sinu. Þau bjuggu í tjaldi á lóðinni yfir sumarið og settu niður nokkur tré og gerðu bátaskýlið upp. Síðar fluttu þau í bátaskýlið sem er aðeins 15 fermetrar að stærð. „Við settum allt okkar hafurtask í geymslu og bjuggum í bátaskýlinu í tvö ár, tvö með hund og kött. Það var yndislegur tími og mjög rómantískur,“ segir Arndís. Nú er báta-

skýlið gestahús og Arndís og Róbert fluttu svo í fallegt hús sem þau byggðu á jörðinni. Arndís segir bílaniðinn frá Reykjanesbrautinni ekki heyrast inni í húsið nema þegar vindurinn blæs af veginum. „Annars heyrum við bara í sjónum og fuglunum.“ Mikið dýralíf er á svæðinu og stundum fylgjast þau með hvölum og selum út um stofugluggann. Stutt frá eru svo hestar og nautgripir í girðingu.

Fólk hendir rusli á víðavangi

Þrátt fyrir að svæðið sé paradís líkast er þó ekki allt sem sýnist því að mikið er um að fólk keyri þangað og losi sig við rusl í gjótur í hrauninu, íbúum skiljanlega til mikils ama. „Við erum búin að hirða upp hér rafmagnsgeyma, þvottavélar, ýmis önnur heimilistæki, skrifborðsstóla og fleira. Síðast í gær fundum við poka fulla af skóm og lampaskermum,“ segir Arndís.

Halda upp á gamla tímann

Fyrir mörgum tugum ára var verbúð í Hvassahrauni og eru þar víða hlaðnir veggir sem teljast til fornminja. Arndís og Róbert hafa svo hlaðið fleiri veggi svo garðurinn þeirra fellur vel að umhverfinu við sjóinn. Þau halda mikið upp á fornminjarnar og gamla tímann. Þar sem jörðin er við sjóinn er töluverð áskorun að rækta þar fallegan garð. Arndís setti sig því í samband við Auði Ingibjörgu Ottesen, ritstjóra tímaritsins Sumarhúsið & garðurinn. Hún hafði gefið út rit um gróður við sjávarsíðuna sem Arndís studdist mikið við. „Ég hélt dagbók yfir allar plöntur sem við gróðursettum. Á þeim tíma var töluvert af rollum á svæðinu og þær átu flestar plönturnar. Ég gafst því á að skrifa niður.“ Rollurnar er ekki lengur á svæðinu og að sögn Arndísar hefur gróðurinn tekið vel við sér eftir að þær fóru.


UR Ð A T S NÝR UR G E L N VÆNTA Æ B S E N JA Í REYK

Við leitum að...

REKSTRARSTJÓRA (REYKJANESBÆ) hressum Dirty Burger & Ribs leitar að óra. rstj stra rek gum og skemmtile

Hlutverk: Ábyrgð á daglegum rekstri Gerð vaktaplana nakostnaði Utanumhald á hráefnis- og lau fsaðila star sam og gja Samskipti við bir Innkaup gt ...og margt fleira skemmtile Hæfniskröfur: fi - Reynsla úr sambærilegu star tt fstæ sjál ið - Þarf að geta unn rlum - Þarf að geta framfylgt verkfe . ur) rg( áby a - Þarf að ver pulögð - Þarf að vera skipulagður/ski m samskiptum egu - Þarf að hafa hæfni í mannl gi ála ir - Þarf að geta unnið und rögð - Nákvæmni og góð vinnub Góð laun í boði fyrir réttan

aðila.

a beðnir Áhugasamir eru vinsamleg inna@dbr.is. atv um að senda umsóknir á

Dirty Burger & Ribs

Miklubraut, Austurstræti & Hafnargötu 85, Reykjanesbæ.

dirtyburgerandribs.is

Við leitum að...

VAKTSTJÓRUM

(REYKJANESBÆ OG REYKJAVÍK)

Dirty Burger & Ribs leitar að geðþekkum vaktstjórum í fullt starf. Bæði í Reykjavík og væntanlegan stað í Reykjanesbæ. Unnið er á 2-2-3 vöktum. Hæfniskröfur: - Þarf að geta framfylgt verkferlum - Þarf að vera ábyrg(ur) - Þarf að vera skipulagður/skipulögð - Þarf að hafa hæfni í mannlegum samskiptum - Þarf að geta unnið undir álagi - Reynsla úr sambærilegu er starfi kostur Góð laun í boði fyrir réttan aðila. Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að senda umsóknir á atvinna@dbr.is.


46

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Ragnheiður Elín - dugleg og heiðarleg ●●Þess vegna skora ég á ykkur að ● setja Ragnheiði Elínu í 1. sæti

DEILDAR S K I E L T T A KÖRFUKN

UR KEFLAVÍK

HÖLLIN VIÐ SUNNUBRAUT LAUGARDAGINN 3. SEPTEMBER FRÁ KL. 10:00 - 13:00.

VF.IS Í NÝJUM FÖTUM

TÖLVUNNI

SNJALLSÍMANUM

FYLGSTU MEÐ Í...

SPJALDTÖLVUNNI

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suður- við nýfjárfestingar og er alltaf boðin kjördæmi verður haldið þann 10. og búin til aðstoðar. Jákvætt viðhorf september næstkomandi. Það er veru- frá yfirvöldum er ómetanlegt og gott lega ánægjulegt að sjá hversu margir fyrir okkur Suðurnesjamenn að hafa öflugir Suðurnesjamenn bjóða sig manneskju sem er fagleg og lætur fram sem og frá öðrum svæðum í hlutina gerast. kjördæminu, sem er ansi víðfeðmt. Ragnheiður Elín er fyrsti ráðherra Ég hef verið mikill stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins frá Suðurnesjum og við ríkisstjórnarRagnheiðar Elínar, og b orð ið hef ur ver ið megin ástæða þess er að ómetanlegt að hafa hún er dugleg og heiðarheimamann. Ætli það leg. Það eru kostir sem að sé ekki hennar helsti mínu mati eru ómetanókostur, sem er líka legir í pólitísku starfi. hennar kostur, að hún Ragnheiður Elín hefur hefur ekki verið dugleg verið öflugur ráðherra að láta vita af þeim í mjög svo viðamiklu öfluga stuðningi sem embætti þar sem hún hún hefur veitt fyrir sitt hefur meðal annars viðsvæði. Þegar hún talar skiptamál, ferðamál, um það sem hún hefur orkumál, iðnaðarmál og gert og komið í framnýsköpun á sinni könnu. kvæmd segir hún aldrei Það er mjög ánægju„ég kom þessu í framlegt að ræða við fólk úr Margrét Sanders kvæmd“ hún segir alltaf þessum geirum sem hver VIÐ, en eflaust alltof af öðrum hrósa henni í hástert. Ég hef sjálf fengið að kynnast lítið haft hátt um það. Hún er liðsframkvæmdasemi Ragnheiðar Elínar, manneskja og það er mikill kostur. menn koma ekki að tómum kofunum Ragnheiður Elín hefur einungis verið hjá henni. Hún hefur verið óþreytandi ráðherra í þrjú ár. Hún er tiltölulega að styðja við framangreinda mála- ný á þingi í sögulegu samhengi en flokka og gríðarlega öflug í að passa hún er samt ein af þremur reynsluupp á sitt kjördæmi svo ekki sé talað mestu þingkonum sem gefa kost á sér um Suðurnesin. Hún var það öflug til áframhaldandi starfa. Það er synd að blaðamenn á Viðskiptablaðinu hvað margar öflugar konur úr öllum skrifuðu um Ragnheiði Elínu að hún flokkum hverfa á braut alltof snemma. væri kjördæmapotari á neikvæðan Sem betur fer gefur Ragnheiður Elín hátt en við á Suðurnesjum og Suður- kost á sér áfram og vona ég að við Suðurnesjamenn styðjum okkar landi segjum að tækifærin séu þar. Það hafa verið gerðir nokkrir fjárfest- fyrsta ráðherra Sjálfstæðisflokksins til ingasamningar hér á Suðurnesjum, áframhaldandi góðra verka. það er gaman að heyra umræðu um Suðurnesjamenn og Suðurkjördæmi það hversu mikið það hefur haft að - Ragnheiði Elínu í 1. sæti. segja að hafa ráðherra sem styður

Youtube Live • Facebook Live • beint.vf.is

Beinar útsendingar á Ljósanótt Sjónvarp Víkurfrétta verður með beinar útsendingar frá ýmsum viðburðum á Ljósanótt, fimmtudag til sunnudags. Við sendum út á Facebook Live, Youtube Live og á beint.vf.is . Til að sjá okkur á Facebook þarft þú að setja „Like“ á Víkurfréttir ehf. Einnig finnur þú Sjónvarp Víkurfrétta í Youtube-appinu í snjalltækinu þínu. Á vefnum finnur þú spilarann okkar á beint.vf.is Sjónvarp Víkurfrétta fær til sín góða gesti á hátíðarsvæði Ljósanætur, sýnt verður frá árgangagöngunni og öðrum viðburðum sem verða á vegi dagskrárgerðarfólks Víkurfrétta. Sjónvarp Víkurfrétta ætlar að fanga stemmningu Ljósanætur og senda hana beint í tölvur og snjalltæki áhorfenda Víkurfrétta út um allan heim.

Sjónvarp Víkurfrétta sendir út á beint.vf.is Þú finnur Víkurfréttir á Facebook undir „Víkurfréttir ehf“ og á Youtube undir „Sjónvarp Víkurfrétta“. Við erum líka á Instagram, Twitter og Snapchat sem „Víkurfréttir“


Opið allan sólarhringinn

Gleðilega hátíð Græjaðu gleðina hjá okkur

REYKJAVÍK Laugalækur 9 Glæsibær Austurstræti 17 Laugavegur 116 Lágmúli 7

Barónsstígur 4 Grímsbær Héðinshús Hjarðarhagi 47 Eggertsgata 24

Miklabraut 100 Kleppsvegur Birkimelur 1 Bústaðavegur 20 Grjótháls 8

Suðurfell 4 Laugavegur 180 Við Vesturlandsveg Borgartún 26 Bankastræti 11 Seljavegur 2

KÓPAVOGUR

HAFNARFJÖRÐUR

GARÐABÆR

REYKJANESBÆR

AKUREYRI

AKRANES

Hjallabrekka 2 Dalvegur 20 Hagasmári 9

Fjörður 13-15 Staðarberg 2-4 Melabraut 29 Reykjavíkurvegur 58

Litlatún

Hafnargata 55 Flugstöð Leifs Eiríkss. Fitjar

Kaupangur

Skagabraut 43


48

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Stuð á Sandgerðisdögum

■■Sandgerðisdagar fóru fram í síðustu viku og náðu hápunkti um helgina. Fjöldi viðburða var á dagskránni og var þátttaka góð enda fínasta veður á Sandgerðisdögunum í ár. Ljósmyndari Víkurfrétta tók meðfylgjandi myndir á hátíðinni.

RAUÐAKROSSBÚÐIN Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ

20% AFSLÁTTUR Í TILEFNI LJÓSANÆTUR Opnunartímar Miðvikudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Fimmtudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Fatnaður og skór.

Rauði krossinn á Suðurnesjum

Óskum eftir sjálfboðaliðum í heimanámsaðstoð í Bókasafni Reykjanesbæjar.

Rauði krossinn á Suðurnesjum og Bókasafn Reykjanesbæjar sameina krafta sína og bjóða upp á heimanámsaðstoð fyrir grunnskólanema af erlendum uppruna/tvítyngd börn frá og með september 2016 í Bókasafni Reykjanesbæjar og vantar sérstaklega sjálfboðaliða í það verkefni. Verkefnið heyrir undir Heimsóknarvini hjá Rauða krossinum. Heimanámsaðstoðin verður í boði fyrir 4. - 10. bekk og reiknað er með að krakkar geti fengið aðstoð tvisvar í viku á þriðjudögum 14.30 – 16.00 og fimmtudögum 16.00 – 17.30. Áhugasamir mega hafa samband við skrifstofu Rauða krossins (Fanney) í síma 420-4700 eða Kolbrúnu, umsjónarmanneskju verkefnisins kolbrunbjork@gmail.com. Samkvæmt reglum Rauða krossins þurfa allir sjálfboðaliðar að skila inn hreinu sakavottorði.

Rauði krossinn á Suðurnesjum

Auglýsingasíminn er

421 0001

Verkið var unnið af listahóp Starfsskóla Sandgerðisbæjar undir leiðsögn frá listakonunni Kolbrúnu Vídalín.

Síbreytilegt listaverk afhjúpað í Sandgerði ■■Listaverkið Auga var afhjúpað á Sandgerðisdögum í síðustu viku. Verkið var unnið af listahóp Starfskóla Sandgerðisbæjar í sumar, undir leiðsögn listakonunnar Kolbrúnar Vídalín. Verkið er þrír rammar úr járni sem standa í varnargarðinum í fjörunni við Sjávarbraut og ramma þeir inn náttúrufegurðina í landslaginu. Segja má að listaverkin séu aldrei eins og breytist á hverju augnabliki. Við athöfnina var boðið upp á kraftmikið trommuatriði frá Tónlistarskóla Sandgerðis og afhenti fulltúi Starfsskóla Sandgerðis bæjarstjóranum, Sigrúnu Árnadóttur, listaverkið formlega. Eftir athöfnina brugðu krakkarnir á leik og römmuðu sig inn og voru listaverkið það augnablikið eins og sjá má að meðfylgjandi mynd.


Ljósanótt

Tilboð á Hafnargötunni 35%

LM63472FL

ÞVOTTAVÉL 7 KG. 1400 SN. Rétt verð: 119.900,-

Verð á Ljósanótt: 89.900,-

25%

LW76806

ÞVOTTAVÉL 8 KG. 1600 SN. Rétt verð: 169.900,-

Verð á Ljósanótt: 126.900,-

AEG veggofn BE5304401-M stál AEG Helluborð HK634021XB með stálramma 57cm.

OFNAR OG HELLUBORÐ Á TILBOÐSVERÐI

T61271AC

ÞURRKARI 7 KG. BARKALAUS Rétt verð: 119.900,-

Verð á Ljósanótt: 89.900,-

25%

T76280AC

ÞURRKARI 8 KG. BARKARLAUS Rétt verð: 129.900,-

Verð á Ljósanótt: 97.900,-

25%

TILBOÐSVERÐ Á KÆLI- OG FRYSTISKÁPUM

Blandaðu beint í glösin með

25%

SMOOTHIE TWISTER

22%

Hársnyrtivörur

25%

Þrifalegu ruslaföturnar vinsælu eru til í mörgum stærðum, gerðum og litum.

Við erum í afsláttarskapi í tilefni af Ljósanótt 49”

55”

LED • 1920X1080 • 400 PQI • Nýtt Smart viðmót 49” K5505 kr. 139.900.Verð á Ljósanótt: 118.900,-

55”

UHD • 4K • 8 milljón pixlar • 1500 PQI • Nýtt Smart viðmót • Quad-Core örgjörfi 55” KU6405/6475 kr. 229.900.Verð á Ljósanótt: 195.900,-

UHD • Curved • 4K • 8 milljón pixlar • 1500 PQI • Nýtt Smart viðmót • Quad-Core örgjörfi 55” KU6655/6505 kr. 249.900.Verð á Ljósanótt: 209.900,-

FYRIR HEIMILIN Í LANDINU

Opnunartímar: Virka daga kl. 10-18. Laugardaga kl. 11-14.

HAFNARgötU 23 REYkjANEsbæ · sÍMI 421-1535

Greiðslukjör Vaxtalaust í allt að 12 mánuði


50

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Umhverfisverðlaun veitt á Sandgerðisdögum

■■Eigendur Túngötu 9, Hólagötu 13 og Strandgötu 16 í Sandgerði hlutu umhverfisverðlaun Sandgerðisbæjar sem afhent voru í síðustu viku á Sandgerðisdögum. Verðlaunahafar fengu afhentan blómvönd, viðurkenningaskjal og merktan stein eftir listakonuna Ástu Óskarsdóttur í Garði.

Um garðinn við Túngötu 9 segir í umsögn dómnefndar að hann beri vott um snyrtimennsku, metnað og dugnað með einkar tilkomumiklu útliti. Plöntufjölbreytni sé ríkjandi þar sem bæði fjölær gróður og trjágróður skarti sínu fegursta yfir sumartímann. Gróskumikill garðurinn sé skýrt dæmi um fjölbreytta möguleika í ræktun og hvatning til margbreytileika ræktunar í bæjarfélaginu.

Í umsögn dómnefndar segir að húsinu við Hólagötu sé sérstaklega vel við haldið og sé snyrtilegt hús með fallegri lóð. Ávalar línur séu í hönnun lóðar og stéttar og samsett með möl, vatni og fallegum gróðri sem skapi sérlega aðlaðandi og vel heppnaða heild.

VF.IS

FYLGSTU MEÐ Í...

TÖLVUNNI

Seacrest Iceland ehf. við Strandgötu 16 hlaut verðlaun fyrir snyrtilegt umhverfi fyrirtækis. Í umsögn dómnefndar segir að byggingin, sem er nýleg, sé einkar vel frágengin í alla staði. Lóðin sé látlaus og að mestu fullfrágengin og beri augljós merki snyrtimennsku. Starfsemin hafi látlaust yfirbragð og hönnun byggingar og lóðar sé þess valdandi að lítið fari fyrir starfseminni í nánasta umhverfi.

SNJALLSÍMANUM

SPJALDTÖLVUNNI

Í NÝJUM FÖTUM

Ljósanæturtilboð í Apótekaranum Keflavík og Fitjum

20%

20% afsláttur af barnavörum, snyrtivörum, sokkabuxum og vítamínum afsláttur gildir 1.– 4. september 2016.

Apótekarinn Keflavík

Apótekarinn Fitjum

- lægra verð


PIZZUR & HLAÐBORÐ FULLT AF SPENNANDI OG KLASSÍSKUM PIZZUM FERSKUR OG HOLLUR SALATBAR MEXÍKÓSK KJÚKLINGASÚPA GOSGLAS

LJÓSANÓTT | ÁSBRÚ ATH: TÖKUM EKKI VIÐ BORÐAPÖNTUNUM LOKUM KLUKKAN 21:00 Á LAUGARDAG


52

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Grill og harmonikkutónar ■■Kokkar á Hrafnistu grilluðu fyrr í sumar fyrir íbúa á Nesvöllum og Hlévangi. Veðrið lék við hvern sinn fingur og myndaðist góð stemmning. Þeir Dói og Elías úr Félagi harmonikkuunnenda á Suðurnesjum léku fyrir matargesti í sólinni. Meðfylgjandi myndir voru teknar í grillveislunni.

TIL FUNDAR VIÐ PÁL MAGNÚSSON Grindavík

Súpufundur í Salthúsinu laugardag 3. september kl. 12 Allir velkomnir! Páll Magnússon býður sig fram í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu sem fram fer hinn 10. september n.k.


ÍSLENSK A SI A .IS ICE 78190 08/16

BENTU Í VESTUR 37.300*

Verð frá kr. Þessi ferð gefur frá 2.100 til 6.300 Vildarpunkta aðra leiðina.

Er Chicago þín borg? Hverskonar leikir eru heimamönnum ástríða. Þeir sem fylgjast með nær öllum mögulegum íþróttum eiga sinn sálufélaga í Chicago. Bentu í vestur. Chicago bíður eftir þér. Þú getur tekið tvær töskur með þér á leiðinni til og frá Norður-Ameríku.

* Innifalið: Flug aðra leiðina og flugvallarskattar.


54

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Á Gefnarborg fá tvítyngd börn markvissa orðaforðakennslu í íslensku samhliða því sem þeirra móðurmál er viðurkennt í öllu daglegu starfi leikskólans.

EKKERT TUNGUMÁL ER ÖÐRU ÆÐRA ●●Innleiða nýja hugmyndafræði tengda fjölmenningu á leikskólanum Gefnarborg í Garði

Samfélagið í Garðinum ber sterkan keim af fjölmenningarsamfélagi og í dag eru 19 börn af 84 börnum í leikskólanum Gefnarborg sem eiga tvö eða fleiri móðurmál. Á leikskólanum eru töluð samtals átta tungumál. Ingibjörg Jónsdóttir tók við stöðu leikskólastjóra þar síðasta haust en áður hafði hún verið aðstoðarleikskólastjóri á leikskólanum Hjallatúni í Reykjanesbæ þar sem hún meðal annars sinnti íslenskukennslu fyrir tvítyngd börn. Hún er nú á lokaspretti í meistaranámi í leikskólakennarafræðum og hefur lagt sérstaka áherslu á mál, læsi og tvítyngi. „Mín skoðun er sú að leikskólinn spili stórt hlutverk í lífi barnanna hvað varðar málþroska, hvort sem þau eru eintyngd eða tvítyngd. Það er mjög mikilvægt að skapa tungumálaumhverfi þar sem öll börn geti notið sín,“ segir hún. Fagna fjölbreytileikanum í Garði

Mikil áhersla hefur verið lögð á það á Gefnarborg að margbreytileiki samfélagsins í bæjarfélaginu fái sín notið sem best. Ingibjörg segir móðurmál hvers barns gríðarlega mikilvægt fyrir sjálfsmynd þess og því er lögð áhersla á að gera öllum tungumálum jafn hátt undir höfði. „Það gerum við til dæmis með því viðhorfi að öll börn standi jafnfætis. Það er ekki á neinn hátt síðra að börnin eigi sér annað tungumál en íslenskuna að móðurmáli,“ segir Ingibjörg. Leikskólinn Gefnarborg vann þróunarverkefni frá árinu 2014 til 2016 sem nefnist ,,Brú milli tungumála” og hlaut verkefnið styrk frá Erasmus+, menntastefnu Evrópusambandsins. Markmið verkefnisins var að styrkja

máltöku og læsi barna af erlendum uppruna, stuðla að því að börn af erlendum uppruna verði sem best tilbúin til þess að takast á við íslenska skólagöngu og styðja við og aðstoða erlenda foreldra í stuðningshlutverki sínu varðandi máltöku og læsi barna á íslensku. Leiðir til að ná markmiðum verkefnisins voru meðal annars að vinna með fjölbreytta málörvunarleiki í spjaldtölvum. Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur lagði tvisvar sinnum mat á orðaforða allra barna af erlendum uppruna á þessu tímabili og sýndu niðurstöður aukningu á töluðum orðaforða og skilningi á öllum deildum leikskólans. Mest var aukningin hjá elstu börnunum, þau yngstu stóðu í stað í töluðum orðaforða en sýndu hækkun á skilningi orða.

Innleiða nýja hugmyndafræði

Á komandi skólaári ætlar starfsfólk leikskólans Gefnarborgar að halda áfram og auka enn meira við það góða starf sem unnið er. „Markmiðið er að efla fjölmenningarlegan skólabrag og móta stefnu um fjölmenningu innan leikskólans. Einnig að gera fjölmenninguna enn sýnilegri og gera öll börn, starfsfólk og aðstandendur enn betur meðvituð um mikilvægi þess að virða og hlusta á raddir ólíkra menningarheima, vinna gegn fordómum og auka víðsýni. Við starfsfólkið á Gefnarborg vonum að þessi markmið eigi eftir að skila sér áfram til alls samfélagsins.“ Hugmyndafræðin sem leikskólinn Gefnarborg ætlar að styðjast við til að ná fram settum markmiðum nefnist Linguistically Appropriate Practice og kemur frá Kanada. „Lykilþráðurinn í hugmyndafræðinni er að viðurkenna móðurmál hvers og eins og líta á það sem styrkleika fremur en veikleika. Það er mikilvægt að flétta fjölmenningunni saman við allt daglegt starf og efla samstarf milli heimilis og leikskóla,“ segir Ingibjörg.

Því miður var það svo hér áður fyrr að stundum var það litið hornauga að börn væru að alast upp við að vera tvítyngd

Góður framburður getur blekkt

Algengur misskilningur er að því yngri sem börn eru þegar þau byrji að læra annað tungumál, því fljótari séu þau að læra. Ingibjörg útskýrir að rannsóknir sýni að því yngri sem börn séu þegar þau flytji til annarra landa því lengur séu þau að ná kunnáttu í báðum málum, það er móðurmáli sínu og nýja tungumálinu. „Börn sem flytja ung eru að læra tvö mál samtímis og hafa ekki þann bakgrunn sem eldri börn búa yfir þegar þau flytja til annarra landa. Bakgrunnsþekking þeirra sem flytja eldri til annarra landa hjálpar þeim að nota undirliggjandi færni og þekkingu til að yfirfæra á annað mál. Eins er það þannig, þrátt fyrir ólíka menningarheima, að þá eru margar samlíkingar. Eftir því sem nemendur eru eldri þegar þeir flytja til annarra landa því móttækilegri eru þeir fyrir því að lesa í menningu þess lands.“ Þá bendir Ingibjörg á að því eldri sem börn eru þegar þau flytja til annarra landa þá búi þau yfir meiri málkunnáttu og hafi ákveðna færni í því sem hægt er að kalla skólamál og geti notað þessa þekkingu til að yfirfæra yfir á nýtt mál. „Þau sem eldri eru, eru samt sem áður í kapp við tímann, því að á sama tíma og þau eru að ná upp góðum orðaforða halda eintyngdir jafnaldrar þeirra einnig áfram að auka akademískan orðaforða sinn og færni í öllum námsgreinum.“ Að sögn Ingibjargar geta börn verið mjög fljót að ná orðaforða sem þau nota í daglegu máli og eftir því sem börnin eru yngri geti þau náð mjög góðum framburði og hljómað því alveg eins og innfæddir í sínum daglegu samskiptum. „Mikilvægt er að kennarar láti ekki blekkjast og hugi vel að orðaforðakennslu tvítyngdra barna.“ Þá segir Ingibjörg mikilvægt í leikskólum að nýta tækifærin til að vinna markvisst með börn í smærri hópum en gengur og gerist í grunnskólum. Á Gefnarborg fá tvítyngd börn markvissa orðaforðakennslu í íslensku samhliða því sem þau finna að móðurmál þeirra er viðurkennt í öllu daglegu starfi leikskólans. Á leikskólanum eru starfsmenn með pólsku og

Ingibjörg Jónsdóttir, leikskólastjóri á Gefnarborg.

spænsku sem móðurmál og segir Ingibjörg það mikil forréttindi og nýtast vel við þjálfun orðaforða barna með þessi móðurmál.

Kenna orðaforða í samstarfi við foreldra

Ein kennsluaðferðin sem stuðst er við í kennslu orðaforða á Gefnarborg er Orðaspjallsaðferðin en með henni fá foreldrar tækifæri til að taka þátt með því að vera í samstarfi við starfsmenn leikskólans við að þýða orðin sem verið er að vinna með yfir á móðurmál þeirra. „Því miður var það svo hér áður fyrr að stundum var það litið hornauga að börn væru að alast upp við að vera tvítyngd og jafnvel dæmi um að foreldrum hafi verið ráðlagt eða bannað að tala móðurmál sitt við barn sitt. Enn í dag þurfa kennarar að vera vakandi yfir því að minna foreldra á það að tala móðurmál sitt við börnin sín. Móðurmál hefur áhrif á sjálfsmynd fólks og er nátengt menningararfi þess og því getur móðurmálsmissir haft í för með sér djúpstæðar tilfinningalegar afleiðingar.“

dagnyhulda@vf.is


Verð frá aðeins

3.490.000 kr.

TIVOLI Á LJÓSANÓTT Fjórhjóladrifinn / Sjálfskiptur / Ríkulega búinn Bílabúð Benna kynnir sportjeppann Tivoli, nýjasta smellinn frá bílaframleiðandanum SsangYong í Suður-Kóreu. Tivoli er allt í senn, flottur, ríkulega búinn, fjórhjóladrifinn og einstaklega lipur í akstri. Tivoli er fyrir þá kröfuhörðu sem kunna að meta stílhreina hönnun, gegnheil gæði og frábært verð – velkomin í Tivoli! Kíktu í heimsókn á benni.is. Verið velkomin í reynsluakstur. Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330

Opnunartímar Virka daga frá 9:00 til 18:00 Laugardaga frá 12:00 til 16:00

4WD – læst

4WD – 50/50 skipt


56

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Taka jákvætt í að sjá nemendum fyrir námsgögnum ■■Fræðsluráð Reykjanesbæjar tekur jákvætt í að Reykjanesbær sjái nemendum í grunnskólum Reykjanesbæjar fyrir námsgögnum og leggur til að gerð verði nánari úttekt á heildarkostnaði sveitarfélagsins. Umræða um kostnað við námsgögn í grunnskólum fór fram í fræðsluráði Reykjanesbæjar á fundi ráðsins í síðustu viku. Fleiri sveitarfélög á Suðurnesjum hafa svipuð mál til skoðunar en Grunnskóli Sandgerðis útvegaði öllum sínum nemendum námsgögn við skólasetningu nú í haust.

Á myndinni eru frá vinstri: Róberta Maloney, deildarstjóri kjaramála, Haukur Þór Arnarson jafnréttisfulltrúi, Hafsteinn Már Einarsson frá PwC, Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia, Drífa Sigurðardóttir mannauðsstjóri í Reykjavík og Sigurður Ólafsson framkvæmdastjóri mannauðs og árangurs.

Isavia hlýtur gullmerki jafnlaunaúttektar PwC Verið velkomin á Base Hotel alla Ljósanæturhelgina! Við verðum með Happy hour frá kl. 20 á fimmtudagskvöld og út helgina Sjáumst um helgina og gleðilega hátíð!

· Bjór: 499 kr. · Kaffi og kaka: 400 kr. Valhallarbraut 756-757 | basehotel.is

Isavia hefur hlotið gullmerki jafnlaunaúttektar PwC í annað sinn og staðfesti úttekin að munur á launum kynjanna er innan við 3,5 prósent hjá fyrirtækinu. Að sögn Björns Óla Haukssonar, forstjóra Isavia, er gríðarlega ánægjulegt að fá gullmerkið í annað sinn. „Ég get þó ekki sagt að það komi á óvart, enda höfum við alla tíð unnið eftir launastefnu og jafnréttisstefnu sem miðar að jafnrétti. Miðað við launakannanir á Íslandi er

það greinilega ekki sjálfsagt mál að enginn munur sé á launum kynjanna, þó það ætti að vera þannig,“ segir hann. Jafnlaunaúttekt PwC greinir kynbundinn launamun innan fyrirtækja þegar tekið hefur verið tillit til annarra þátta sem hafa áhrif á laun, svo sem menntunar, starfsaldurs, starfaflokks og vinnustunda en þannig veitir hún upplýsingar um raunverulegan launamun kynja.

Auglýsingasíminn er

421 0001


HAGKVÆM 15,6“ FULL HD MEÐ SSD ! Ótrúlega vel búin 15,6” fartölva miðað við verð. Ofurhraður 128GB SSD diskur, 6GB minni og Intel örgjörvi. Kristaltær FullHD háskerpuskjár. INTEL

ÖRGJÖRVI

6GB

128GB

MINNI

SKJÁR

FRÁBÆR KAUP FYRIR SKÓLANN ! Ofurskýr FullHD skjár, hraður 256GB SSD, 6GB vinnsluminni og Intel Pentium örgjörvi. Sterkbyggð og glæsilega hönnuð frá Acer.

ACE-NXMVHED178

INTEL

6GB

ÖRGJÖRVI

256GB

MINNI

SSD DISKUR

89.995

69.995

15,6”

SSD DISKUR

ACE-NXGCEED018

GTX950M LEIKJASKJÁKORT ÁSAMT SSD OG STÓRUM HDD ! Frábær kaup. Intel i5 örgjörvi, 96GB SSD og 1TB gagnadiskur. 2GB GTX 950M leikjaskjákort og kristaltær FHD háskerpuskjár.

15,6”

INTEL i5

SKJÁR

6GB

ÖRGJÖRVI

MINNI

GTX950M

LEIKJASKJÁKORT

15,6” SKJÁR

149.995

ACE-NXGDZED020

HAFNARGÖTU 90 • SÍMI 414 1740

MEIR

A EN

ÚTV SJÓ DVD BÍLM BÍLHÁ BÍLT NVÖ Ö RP TAL AGN S ÆKI PILA RP F MP3 ARA ARAR E R RÐA R AR ÞRÁ SPILA TÆK M Ð A R I L GNA AR AUS HÁT ALA RAR HLJ I RAR R SÍM Ó MBO MYN AR H RÐ E DAV YRN É

ALL TEGU T N DIR M LOK A ADA E Ð Ð ÓT G UPP 7 A RÚLE R–L 5 ÞVO % GUM OKA ÞVO TTA A TTA V DAG AFSL F VÉL ÉLAR A ÆTTI S R–L AR L OKA Á T DAG T AR – UR LOK AD 2000

LAR

VÖRU

HRÆ ELD RIV A Ö É FRY STIK LAR HÁ RBYLGJ VÉLAR BLA UOF FAR ISTU NDA NAR ÍSSKÁ S R RAR A OFN M ÞUR PAR LOK STR AR VÖF RKA UGR AUJ FLU KAF ÁRN RAR ILL JÁR FIVÉ N RYK R AKV SUG ÉLA LAR UR R 7 VERSLANIR UM ALLT LAND

SUÐURLANDSBRAUT 26 HAFNARGÖTU 90 AUSTURVEGI 34 ÞJÓÐBRAUT 1

REYKJAVÍK REYKJANESBÆ SELFOSSI AKRANESI

S: 569 1500

GLERÁRTORGI

S: 414 1740

GARÐARSBRAUT 18A

S: 414 1745

KAUPVANGI 6

AKUREYRI HÚSAVÍK EGILSSTÖÐUM

S: 431-3333

TAKMARKAÐ MAGN Fyrstur kemur – fyrstur fær!

S: 460 3380 S: 464 1600 S: 414 1735

ART

REIK

NIV

ÓL

ÉLA

AGA R

HEL

LUB

ORÐ

Sjá allt úrvalið á ht.is

OPIÐ! OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 OG LAUGARDAGA 11-16

HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ Sími 414 1740

R


58

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

Löggan heimsótti boxara fyrir 15 árum ●●HFR er elsta hnefaleikafélag landsins

Guðjón Vilhelm hugar hér að Tinnu Guðrúnu Lúðvíksdóttur í Boxhöllinni í Reykjanesbæ árið 2003.

Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,

Jón Björn Vilhjálmsson,

Grænlandsleið 44, áður Reykjanesbæ, lést á hjartadeild Landsspítalans 28. ágúst sl. Margrét Elimarsdóttir, Heiðar Reynisson, Haraldur Reynisson, Elimar Tómas Reynisson, Ásta Björnsdóttir, Ólafur Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn.

Brynhildur Stefánsdóttir, Guðný Hrefna Leifsdóttir, Rósa Ingvarsdóttir, Anna Gunnlaug Egilsdóttir,

Árið 2001 var stofnfundur Hnefaleikafélags Reykjaness haldinn. Tilgangur félagsins var að berjast fyrir lögleiðingu ólympískra hnefaleika á Íslandi. 35 félagsmenn mættu til stofnfundar. HFR er því elsta hnefaleikafélagið á landinu. Félagið er í mikilli sókn og sækir keppnir á innlendum sem erlendum mótum. Félagið á að baki marga Íslandsmeistaratitla og viðurkenningar fyrir sigra í keppnum. HFR er með öfluga unglingastarfsemi og einn efnilegasta keppnishóp á landsvísu í diploma hnefaleikum. Þegar hnefaleikar urðu leyfileg íþrótt á Íslandi var ákveðið að HFR skyldi reyna að fá inngöngu í ÍBR, sem og varð raunin. Síðan hefur íþróttin og félagið notið mikilla vinsælda. Árið 2007 flutti félagið yfir í núverandi húsnæði, gömlu sundhöllina við Framnesveg. Þar urðu virkir iðkendur allt að 150 talsins. Stuttu eftir flutninginn tók við nýr þjálfari, Daði Ástþórsson, og eitt sigursælasta tímabil félagsins gekk í garð. Þar má nefna að félagið átti alls sex Íslandsmeistara árið 2009. Síðan þá hefur Björn Björnsson séð um þjálfun og séð til þess að íþróttin

haldi sínu striki, en hann sinnir einnig starfi formanns. Félagið hlaut viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag, en HFR er eina hnefaleikafélagið enn sem komið er til að hljóta þann heiður. Úr ársskýrslu Íþróttabandalags Reykjanesbæjar 2016 kemur fram að HFR sé í mikilli sókn þar sem iðkendum fjölgaði um 30 prósent milli ára þar sem meirihlutinn eru ungmenni. „Fyrst þegar dóttir mín sagði að hún ætlaði að æfa box þá varð ég dauðhrædd, en það var áður en ég fékk að kynnast starfseminni og fólkinu sem á þar í hlut,“ segir Berglind Sigurðardóttir úr foreldrafélagi HFR. Miklir fordómar í garð hnefaleika Þann 11. febrúar árið 2002 voru samþykkt lög á Alþingi um að leyfa áhugamannahnefaleika á Íslandi. „Það er rosalega skrítið að fyrir bara 15 árum voru svo miklir fordómar gagnvart þessari íþrótt. Þetta er ólympísk íþrótt og hvar annars staðar í Evrópu tekið bara sem hverri annarri íþrótt en hér á Íslandi er maður að fá heimsókn frá löggunni,“ segir Guðjón Vilhelm. Lögregluheimsóknir voru tíðar fyrir grun um iðkun hnefaleika. „Þetta

Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og kærleiksríkan hlýhug vegna fráfalls og útfarar okkar ástkæra,

Jóhannes Hilmar Jóhannesson, Sóltún 2, Garði.

Fyrir hönd fjölskyldunnar Jóna Rut Gísladóttir, Jóhannes Jóhannesson, Þórey Ása Hilmarsdóttir.

Frá hnefaleikakeppni á Ljósanótt 2003 þar sem Skúli Steinn Vilbergsson á í höggi við öflugan Dana.

voru svo menn sem við þekktum, höfðu kannski æft jafnvel, en þarna voru þeir bara að vinna vinnuna sína. Þeim leið alveg illa með þetta en svona voru lögin.“ Haldið verður glæsilegt hnefaleikamót á Ljósanótt í ár, þar sem allir bardagar verða án höfuðbúnaðar og má búast við mikilli spennu í loftinu. Keppendur frá Keflavík eru: Vikar Sigurjónsson, sem er einn af stofnendum félagsins og virkustu keppendum í gegnum árin; Helgi Guðmundsson, Tae Kwon Do og BJJ þjálfari á Suðurnesjum og Þorsteinn Róbertsson, einn efnilegasti boxari Keflavíkur í dag. Kynnar kvöldsins verða Vikar Sigurjónsson og Guðjón Vilhelm, tveir af mönnunum sem komu þessu öllu saman af stað. Fram kemur leynigestur beint af götum Keflavíkur. Þess má geta að Guðjón Vilhelm situr nú í stjórn HFR rétt eins og í gömlu daga. „Já, ég sannfærði Björn um að hleypa mér í stjórnarsætið og síðan þykist hann hlusta á mig,“ segir Guðjón spaugilega og bætir við að lokum: „Það hefur verið ótrúleg vakning á bardagaíþróttum á síðustu árum en það eru bara 15 ár síðan félagið var stofnað hér í Keflavík, og 14 ár síðan þessir krakkar hér máttu ekki einu sinni stunda íþróttina.“


Sérfræðingur á mannauðssviði Við leitum að liðsstyrk á mannauðssvið fyrirtækisins. Ef þú ert skipulagður einstaklingur með framúrskarandi samskiptahæfileika gæti þetta verið starf fyrir þig. Helstu verkefni

Menntunar-og hæfniskröfur:

Val og ráðningar nýrra starfsmanna

Háskólamenntun á sviði mannauðsmála

Gerð ráðningasamninga og starfslýsinga

Starfsreynsla á sviði mannauðsmála kostur

Þátttaka í starfshópum

Haldgóð þekking á stefnum og aðferðafræði mannauðsstjórnunar

Stuðningur og ráðgjöf við stjórnendur vegna ráðninga, þjálfunar, starfsþróunar og fl.

Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

Upplýsingagjöf og stuðningur við starfsmenn, s.s. nýliðamóttaka, starfsþróun og fl.

Mikil skipulagshæfni og góðir samskiptahæfileikar Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að vinna í hóp.

Gerð ferla, mælikvarða og markamiða í starfsmannamálum Umsjón með launa- og kjaramálum starfsmanna. Önnur tilfallandi verkefni innan mannauðsssviðs

Við leitum af öflugum einstaklingum með brennandi áhuga á mannauðsmálum. Mikil áhersla er lögð á skipulagshæfni og góða samskiptahæfileika.

Nánari upplýsingar veitir Telma Guðlaugsdóttir telma@airportassociates.com. Umsóknir ásamt ferilskrá óskast fylltar út á heimasíðu fyrirtækisins, www.airportassociates.com. Umsóknarfrestur er til 15.september 2016.


60

VÍKURFRÉTTIR

Sandgerðingar sýndu gamalkunna takta ■■Gamlir refir úr boltanum létu ekki smá ringningarúða á sig fá á Sandgerðisdögum þegar fram fór hinn alræmdi slagur milli norður- og suðurhluta Sandgerðisbæjar í fótbolta. Það fór lítið fyrir hraðanum í leiknum í elsta aldursflokknum en reynslan skein af hverju andliti. Forna keppnisskapið var ennþá til staðar þó svo að allir hafi verið léttir og kátir í leikslok. Talsvert af glæsilegum tilþrifum litu dagsins ljós í leikjunum en auk þeirra fór fram spennandi vítaspyrnukeppni. Eyþór Sæmundsson blaðamaður Víkurfrétta tók meðfylgjandi myndir frá fjörinu.

fimmtudagur 1. september 2016

Tvö draumahögg Suðurnesjakylfinga ■■Tveir Suðurnesjakylfingar fóru holu í höggi nýlega. Guðjón Svavarsson náði draumahögginu á 16. braut í Leirunni í Nettó-mótinu á Þ-mótaröð GS nýlega. Guðjón gerði sér lítið fyrir og lék líka sinn besta hring á 75 höggum og vann punktakeppnina með 44 punktum. Hitt draumahöggið kom hjá hinni efnilegu Laufeyju Jónu Jónsdóttur. Hún fór holu í höggi á 7. braut á Þorláksvelli sem var hennar 16. hola í viðureign hennar við Sögu Traustadóttur úr GR í sveitakeppni unglinga. Laufey gerði sér lítið fyrir og kláraði viðureign sína við Íslandsmeistarann Sögu með sigri. Jafnt var á milli þeirra eftir 15 holur en Laufey nýtti sér draumahöggið á 16. holu og fylgdi því eftir með sigri.

ljósanótt

20%

AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SKÓM frá MIÐVIKUDegi TIL SUNNUDAGS

20% aukaafsláttur af öllum skóm í

Opið Miðvikdag, fimmtd., föstud. og laugard. 11:00 - 22:00 Sunnud. 13:00 - 18:00

ernum

opið á

Hafnargata 29 - s. 421 8585

kólag inum í s g e d r a laug


PIPAR \ TBWA •

SÍA •

162159

NÝTT 10 LUNDIR 4 DÝFUR

DIPS BUCKET Tíu kjúklingalundir og fjórar sósur; sterk, bbq, karrí og súrsæt.

TILBOÐ: 2.499 kr.


62

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 1. september 2016

„Við eigum oft mjög góðar stundir á Reykjanesbrautinni þar sem við förum yfir leikinn sem við vorum að dæma. Það er mjög dýrmætur tími og nýtist okkur oft vel,“ segja þeir félagar.

FLOTT AÐ HÆTTA Á

TOPPNUM ●●Engir Íslendingar hafa dæmt fleiri handboltaleiki en þeir Gísli og Hafsteinn sem núna leggja frá sér flautuna eftir 34 ár í dómarasætinu

Þeir Hafsteinn Ingibergsson og Gísli H. Jóhannsson eiga að baki langflesta leiki handboltadómara hér á landi. Þeir hófu dómaraferilinn um bílprófsaldur en þá var handboltinn mjög vinsæll á Suðurnesjum. Þegar kom að því að hefja undirbúning fyrir komandi tímabil voru þeir alveg sammála um að nú væri kominn tími til þess að segja þetta gott eftir 34 ár í boltanum. „Já það er mikill léttir. Þegar maður var búinn að taka þessa ákvörðun og láta fólk vita þá var þungu fargi af manni létt,“ segir Hafsteinn. „Þegar það var kominn tími til þess að byrja enn eitt tímabilið þá fann maður bara ekki þennan neista sem þarf að vera til staðar. Maður er orðinn sannfærður um að þetta hafi verið rétti tímapunkturinn núna. Við vorum ennþá að dæma í efstu deild og það er nokkuð flott að hætta á toppnum. Við vildum ekki vera að slufsast í þessu þangað til að okkur yrði ýtt út,“ bætir hann við. „Við höfum verið að hugsa þetta undanfarin ár. Það var gott að fá að taka þessa ákvörðun sjálfir, ekki að einhver myndi segja við okkur „eruð þið ekki að fara að hætta?“ Þegar þetta var opinbert þá var ljóst að ekki yrði aftur snúið,“ skýtur Gísli inn.

Klökkna við ummælin á samfélagsmiðlum

Þegar blaðamaður spyr hvort þeir hafi endilega þurft að hætta á sama tíma þá eru þeir fljótir til svara. „Já, já það kom aldrei annað til greina,“ segir Gísli. „Það hefur aldrei komið til tals að gera það ekki,“ bætir Hafsteinn við.

Hvernig hafa viðbrögðin verið eftir að þið tókuð þessa ákvörðun? „Þau hafa verið rosalega góð. Maður sér það helst á Facebook og þegar maður les öll ummælin þá verður maður bara klökkur,“ segir Gísli. „Ég held að konan hafi verið ánægðust með þessa ákvörðun hjá mér,“ segir Hafsteinn og hlær. Flesta unga iðkendur dreymir um atvinnumennsku í íþróttum og er starf dómarans ekki alltaf það eftirsóknarverðasta. „Ég veit ekki hvað heillaði við starfið. Við tókum prófið til þess að dæma fyrir Keflavík á fjölliðamótum þar sem vantaði dómara. Svo æxlast það að við fundum okkur saman í þessu og fórum út í það að dæma. Svo leiðir eitt af öðru, við förum að fá stærri leiki og keppni og metnaður fer að spila inn í,“ segir Hafsteinn og Gísli tekur í sama streng. Á þessum langa og gæfuríka ferli hafa þeir félagar upplifað flest allt sem íþróttin hefur upp á að bjóða. En er eitthvað sem á eftir að haka við á gátlistanum? „Við hefðum auðvitað viljað verða milliríkjadómarar á sínum tíma. Það var hins vegar smá klúður í dómaranefnd á sínum tíma þar sem þeir gleymdu að tilnefna okkur. Þá duttum við út í 2 til 3 ár og

þá vorum við að detta á aldur, rétt um þrítugt,“ segir Gísli.

Gott að þekkjast vel á vellinum

Þeir kumpánar hafa verið vinir frá unglingsárum og tóku dómarapróf í handbolta og fótbolta sem táningar árið 1982. Það gerðu þeir aðallega til þess að geta hjálpað til og dæmt á mótum innan félagsins en þeir æfðu þá báðir handbolta með Keflavík. „Þeir leikir sem við höfum ekki dæmt saman eru teljandi á fingrum beggja handa. Þegar ég hef kannski dottið út vegna meiðsla,“ segir Gísli sem var einnig um 25 ára skeið dómari í fótboltanum. Þar hætti hann fyrir níu árum. Nú liggja að baki 1.700 leikir í handboltanum og þúsundir kílómetra á ferðalögum um allan heim á þessum 34 árum sem þeir hafa dæmt. Saman hafa þeir dæmt sex bikarúrslitaleiki. Þeir hafa ferðast til Kína, Grikklands, Írlands og Bandaríkjanna og dæmt á Special Olympics. „Þegar menn eru búnir að vera svona lengi í þessu saman þá skynja þeir alveg styrkleika og veikleika hvors annars og bökkum hvorn annan upp. Þegar svo kannski hefur verið mikið álag í vinnu eða í einkalífinu og svona

þá vill maður stundum taka það með sér á völlinn. Þá er gott að vera með „makker“ sem maður getur rætt þá hluti við. Hinn skynjar þessa hluti þar sem við þekkjumst þetta vel,“ segir Hafsteinn. Þeir þekkja vel inn á hvorn annan á vellinum og nota mikið af sérstökum bendingum og táknmáli sem þeir einir þekkja. Dómari í fremstu röð þarf að hafa sterk bein og þola gagnrýni og skrif um sig. Þeir Gísli og Hafsteinn hafa fyrir löngu brynjað sig frá hrópum og köllum áhorfenda en þeim þykir skemmtilegast að dæma leiki þar sem húsið er fullt og stemningin góð. „Það er fullt af góðu fólki í kringum handboltann, stuðningsmenn og annað sem maður veit að munu koma til með að sakna okkar,“ segir Gísli.

Sinna núna afahlutverkinu

Hafsteinn segir að dómarastörfin hafi gengið vel samhliða fjölskyldulífinu. „Fjölskyldan þekkir ekkert annað. Við höfum verið að síðan við vorum 17 ára í fremstu röð og þetta hefur alltaf verið hluti af vetrardagskránni,“ segir Gísli. Þegar síðasta tímabil kláraðist í vor þá vissu þeir ekki að sá leikur yrði þeirra síðasti. „Við erum báðir orðnir

afar. Það er kominn tími til þess að fara að sinna barnabörnum og svona, það hefur ýmislegt breyst,“ segir Hafsteinn. Nú þegar þeir eru hættir dómarastörfum þá er óneitanlega mikill frítími og tómarúm sem skapast. Haldin var dómararáðstefna í Reykjanesbæ síðustu helgi þar sem þeir voru mikið spurðir að því hvað þeir ætluðu nú að fara að gera. „Þið verðið að finna ykkur eitthvað annað,“ hefur maður heyrt frá sumum. „Það þýðir ekkert að vera að hanga hjá konunni öll kvöld,“ segja aðrir,“ segir Hafsteinn og skellir upp úr. Þeir hafa báðir velt því fyrir sér að fara að stunda golf. Það hefur ekki slest upp á vinskapinn á þessum 34 árum en auðvitað eru þeir ekki alltaf sammála. Þeir störfuðu saman í Fríhöfninni hér áður fyrr og ráku svo Stapann um tveggja ára skeið. „Ég hefur stundum grínast með það að maður hefur verið meira með Gísla en konunni,“ og þeir hlæja báðir. „Það er stundum sagt þegar maður kemur einhvers staðar einn, „hvar er Hafsteinn?“ það er ekkert verið að spyrja um konuna,“ bætir Gísli við. eythor@vf.is


Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

Mundi Gamli bærinn minn! STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

Safna flöskum undir fölsku flaggi ●●Segjast safna ● fyrir Þroskahjálp

twitter.com/vikurfrettir

instagram.com/vikurfrettir

Frí Kjötsúpa og drykkir fyrir gesti

Við sýnum glæsilega Hyundai bíla Laugardaginn 3. september (Ljósanótt) milli kl. 13 og 17

■■Tveir karlmenn hafa undanfarið bankað upp á í húsum á Suðurnesjum og sagst vera að safna flöskum og dósum til styrktar Þroskahjálp á Suðurnesjum. Að sögn Ingu Jónu Björgvinsdóttur, forstöðumanns Dósasels, eru karlarnir ekki á vegum samtakanna. Aftur á móti tekur starfsfólk Dósasels að sér að sækja flöskur og dósir til fyrirtækja og heimila en á þeirra vegum er aldrei gengið í hús til að safna. D ó s as el e r móttökustö ð f y r i r drykkjarílát og er á vegum Þroskahjálpar á Suðurnesjum.

Komdu og reynsluaktu

Skartgripum og úrum stolið í innbroti ■■Fjórum úrum og skartgripum var stolið í innbroti í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á dögunum. Spenntur var upp gluggi á húsinu og var þar farið inn í húsið. Húsráðandi varð var við skemmdirnar og saknaði munanna þegar hann kom heim eftir að hafa unnið á næturvakt. Lögregla rannsakar málið.

Hyundai i10

Gistinóttum fjölgaði um 23% í júlí ■■Gistinóttum á hótelum á Suðurnesjum fjölgaði um 23 prósent í júlí á þessu ári, miðað við í fyrra og voru 23.449 í ár en 16.673 í fyrra. Fjölgun gistinátta á landinu öllu í júlí var 22 prósent. Mest varð fjölgunin á Vesturlandi og Vestfjörðum eða 40 prósent. Frá þessu er greint á vef Hagstofunnar. Tölurnar miðast við hótel sem opin eru allt árið, en ekki gistiheimili.

Fjármögnum allt að 90% af kaupverði www.lykill.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook