• fimmtudagurinn 8. september 2016 • 35. tölublað • 37. árgangur
STÆRSTA FRÉTTA OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
„Vægast sagt martröð“ l Drengir stungu sig á blóðugri sprautunál á leiksvæði í Njarðvík l Vörðu laugardegi á Ljósanótt á heilbrigðisstofnun Sex drengir á aldrinum 4 til 5 ára þurftu að verja síðasta laugardegi á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í blóðrannsóknum eftir að að minnsta kosti tveir úr hópnum höfðu stungið sig á blóðugri sprautunál við leiksvæði í Innri Njarðvík. Foreldri eins af drengjunum lýsir atvikinu sem martröð. Foreldrar drengjanna séu óttaslegnir og framundan eru bólusetningar og fleiri blóðprufur á drengjunum. Drengirnir sex voru að leika sér á leikvelli í enda götunnar Hamradals í Innri Njarðvík síðasta laugardag og fóru þá inn í nýbyggingu við Leirdal, sem stendur við leikvöllinn. Þar fundu drengirnir meðal annars sprautu með nál.
Skylmingaáhugi er mikill hjá drengjunum og þeir fóru því að leika sér með sprautuna og notuðu hana í skylmingum þar sem að minnsta kosti tveir þeirra hlutu stungusár. Upp komst um málið þegar sprautan fannst í forstofu heima hjá einum drengnum. Þá var farið í að grennslast fyrir um hvaðan hún kom og drengirnir spurðir út í málið. Drengirnir vísuðu á staðinn sem var í nýbyggingu sem stendur við Leirdal og er kölluð draugahúsið hjá þeim sem þar búa í kring, enda staðið lengi ófrágengin. Farið var með drengina á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þar gengust allir undir blóðprufur þar sem leitað var eftir smiti vegna lifrarbólgu
B og C, ásamt HIV. Þá gengust þeir einnig undir bólusetningu við lifrarbólgu B en ekki er hægt að bólusetja við lifrarbólgu C eða HIV. Móðir eins af drengjunum sagði í samtali við Víkurfréttir að það hafi verið mikið grátið á sjúkrahúsinu. Fyrsta blóðrannsókn hafi hins vegar leitt í ljós að þeir hafi ekki smitast. Hins vegar þurfi að fara fram önnur blóðrannsókn síðar, sem og fleiri bólusetningar. Móðirin sem Víkurfréttir ræddu við segir að laugardagurinn hafi verið vægast sagt martröð fyrir fjölskyldur drengjanna. Um er að ræða fimm fjölskyldur sex drengja á aldrinum 4 til 5 ára, eins og áður segir.
Þegar farið var inn í nýbygginguna við Leirdal, þar sem drengirnir fundu sprautuna með nálinni, þá fundust þar einnig bjórdósir, sígarettur og flöskur sem höfðu verið notaðar sem lón til hassreykinga. „Það er skelfilegt að þetta sé svona inni í miðju íbúðahverfi og við leikvöll barnanna,“ sagði móðirin við Víkurfréttir. Atvikið hefur verið tilkynnt til lögreglu. Hún hafði samband við eiganda húsnæðisins sem hefur neglt plötur fyrir op þannig að ekki á að vera hægt að komast þar inn. Þá hefur barnaverndaryfirvöldum einnig verið tilkynnt um atvikið.
80 þúsund á Garðskaga
Velferðarráð vill kaupa hús fyrir heimilislausa í Reykjanesbæ
FÍTON / SÍA
n Velferðarráð Reykjanesbæjar leggur til að fest verði kaup á tveimur forsniðnum einingahúsum til að leysa bráðan húsnæðisvanda heimilislausra einstaklinga í Reykjanesbæ. Á síðasta fundi velferðarráðs fór Hera Ósk Einarsdóttir, sviðssjóri Velferðarsviðs yfir tillögur að lausnum í húsnæðismálum einstaklinga sem glíma við fíkni- og geðvanda en nú var tillaga um kaup á húsnæði lögð fram á fundi fyrr í vikunni. Tillagan er lögð fram vegna þrengingar á leigumarkaði og vaxandi biðlista eftir félagslegu húsnæði að sögn Heru Óskar sviðsstjóra. „Þessum viðkvæma og tekjulága hópi gengur erfiðlega að útvega sér húsnæði á almennum markaði og þótt að sumir í þessum hópi geti gist hjá ættingjum eða vinum, þá er þar bara um tímabundna lausn að ræða en húsnæðisleysið viðvarandi,“ segir Hera. Velferðarráð Reykjanesbæjar leitar því eftir stúdíóíbúðum til að mæta þörfum þeirra sem eru í allra brýnustu neyðinni og hefur m.a. komið til umræðu hvort festa ætti kaup á forsniðnum einingahúsum um 25 fm að flatarmáli til að mæta þeirri þörf.
einföld reiknivél á ebox.is
n Talning ferðafólks hófst á Garðskaga í byrjun júní og hefur komið í ljós að um 40.000 manns komu á svæðið hvorn mánuðinn júní og júlí í sumar, eða um 80.000 manns þessa tvo mánuði. Umferð hefur verið að aukast jafnt og þétt að vinsælum ferðamannastöðum á Suðurnesjum í ár en ekki hefur verið haldið sérstaklega utan um fjölda gesta fyrr en nú í sumar. Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Garði greinir frá þessu í vikulegum molaskrifum sínum.
Um fimm þúsund kjötsúpuskammtar runnu út á Ljósanótt. Skólamatur bauð gestum ljúffenga súpu sem þeir gátu borðað á meðan bæjarstjórnarband söng á litla sviðinu. Ljósanótt 2017 heppnaðist mjög vel og aðsóknarmet var líklega slegið. Á myndinni má sjá Axel Jónsson og hans fólk í súpufjöri. Ljósanóttin verður í sviðsljósinu í vikulegum sjónvarpsþætti Víkurfrétta á ÍNN og á vf.is í dag og kvöld. VF-mynd/pket.
Ómetanlegt að búa á Reykjanesinu og starfa að alþjóðlegum verkefnum
l Ráðgjafafyrirtæki í Sandgerði hlýtur 33 milljónir í styrki Ráðgjafafyrirtækið Skref fyrir Skref ehf. í Sandgerði hlaut á dögunum tvo styrki til alþjóðlegra verkefna, samtals að upphæð um 33 milljónir. Annar styrkurinn er frá Erasmus Plus, samstarfsáætlun Evrópusambandsins og hinn frá NordPlus. Skref fyrir skref ehf. hefur unnið að hönnun, þróun og kennslu námskeiða síðastliðin 25 ár í samstarfi við fjölmörg fyrirtæki hér á landi sem og erlendis. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í óhefðbundnum og áhugaverðum aðferðum við kennslu og þjálfun fullorðinna á vinnumarkaði. Undan-
farinn áratug hefur fyrirtækið starfað með aðilum í ferðaþjónustu við að þróa efni og aðferðir sem henta sérstaklega við þjálfun innan fyrirtækja í ferðaþjónustu. Hansína B. Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Skref fyrir skref segir það ómetanlegt að búa á Reykjanesinu og starfa að alþjóðlegum verkefnum. „Gestir okkar njóta forréttinda þegar þeir koma hingað á fundi; í stórkostlega náttúru, dvelja í miðjum Geoparki og njóta gestrisni heimamanna en við fáum öflugan stuðning frá sveitarfélaginu og samfélaginu öllu.“
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
n Samstarfsaðilar í verkefninu „Tool 4 Trainers“ í móttöku hjá listakonunni Kolbrúnu Vídalín á Sandgerðisdögum. Kolbrún er til vinstri á myndinni og Hansína til hægri.
NordPlus úthlutaði á dögunum styrk til Skref fyrir skref að upphæð 51.708 evrur, eða 6,7 milljónir íslenskra króna. Stykurinn er til að stýra 16 mánaða þróunarverkefni undir nafninu „Tools 4 Trainers“ þar sem unnið er að því að þróa áhugaverðar og einfaldar leiðir til þess að þjálfa frumkvöðla og eigendur smærri ferðaþjónustufyrirtækja á landsbyggðinni. Verkefninu er stýrt af Skref fyrir Skref en samstarfsaðilar eru í Eistlandi, Lettlandi, Lithaen og Finnlandi. Fulltrúar þeirra komu til landsins þegar verkefnið var formlega sett af stað á Sandgerðisdögum. Styrkurinn frá Erasmus Plus er að upphæð 203.313 evrur eða um 26,3 milljónir íslenskra króna og fer hann
í verkefni í samstarfi við aðila í Tékklandi, Póllandi, Litháen, Eistlandi og á Tenerife. Markmið með verkefninu er að nota óhefðbundnar aðferðir við að þjálfa aðila í ferðaþjónustu til þess að hanna eigin húsbók eða „Book of Business“ í þeim tilgangi að stytta þjálfunartíma innan fyrirtækjanna en auka um leið stöðugleika og gæði. Verkefnið er til tveggja ára og verða sett upp tilraunaverkefni með ferðaþjónustuaðilum í hverju landi. Niðurstöður og reynslusögur verða birtar á netinu meðan á verkefninu stendur. Samstarfsaðilarnir koma hingað til lands í byrjun október næstkomandi og fer verkefnið þá formlega af stað í Sandgerði.
2
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 8. september 2016
Hart barist hjá sjálfstæðismönnum ●●Sex af 11 frambjóðendum í prófkjöri nk. laugardag eru Suðurnesjamenn ■■Prófkjörsbarátta hjá sjálfstæðismönnum hefur verið lífleg en prófkjör verður nk. laugardag í Suðurkjördæmi. Þrjú berjast um efsta sæti listans sem Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur verið í, síðstu tvö kjörtímabil. Auk hennar býður Páll Magnússon fyrrverandi útvarpsstjóri sig fram í 1. sæti og Ásmundur Friðriksson, þingmaður býður sig í 1.-2. sæti. Sex af ellefu frambjóðendum í prófkjörinu búa á Suðurnesjum. Vel á annað hundrað manns sóttu sameiginlegan fund allra frambjóðenda á Nesvöllum í vikunni. Líflegar umræður voru um brýnustu málin og frambjóðendur kynntu sig. Helstu málefnin sem brunnu á frambjóðendum sem og fundargestum voru heilbrigðis- og samgöngumál. Þá voru málefni aldraðra og húsnæðismál einnig mikið til umræðu.
Það voru þau Frosti Gíslason, verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, sem undirrituðu samninginn. Með þeim á myndinni eru Ívar Valbergsson til vinstri og Berglind Kristinsdóttir til hægri.
Ný Fab Lab smiðja vítamínsprauta fyrir nýsköpun og tækni
Frábær stemning ●●segir Ásmundur Friðriksson ● sem býður sig í 1.-2. sætið
■■„Prófkjörsbaráttan í mínu framboði hefur gengið framar vonum. Þeir sem vinna með mér og þekkja til kosningavinnu hafa ekki áður kynnst jafn góðri stemningu. Það byggir á gleði og ánægju og þeim kostum sem við búum yfir. Við höfum haldið okkur við að kynna mín mál og það sem ég hef staðið fyrir í þinginu og hlusta á fólkið sem til okkar kemur. Þar brennur helst á fólki kjör eldri borgara, samgöngumál, Helguvík og ferðaþjónustan. Allt mál sem ég mun beita mér fyrir og vinna að. Okkar framkoma og upplag vinnunnar hefur fallið fólkinu vel og það streymir til okkar á kosningaskrifstofuna, sendir mér skilaboð og hringir inn hvatningarorð og heilræði. Ég get ekki beðið um meira og er þakklátur mínu fólki fyrir mikla og góða vinnu og stuðningsfólkinu góðar undirtektir,“ segir Ásmundur.
●●Ýmis tæki og tól til stafrænnar framleiðslu ● til afnota fyrir almenning og skólafólk Undirritaður var samningur um Fab Lab smiðju í Keili í byrjun vikunnar. Smiðjan er samstarfsverkefni atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Keilis. Markmiðið með starfsemi Fab Lab á Reykjanesi er að auka þekkingu skólafólks og almennings á persónumiðaðri framleiðslu og stafrænum framleiðsluaðferðum. Verkefninu er ætlað að auka áhuga á verk- og tækninámi í grunn- og framhaldsskólum, auka tæknilæsi og tæknivitund og efla hæfni til nýsköpunar í námi og atvinnulífi. Markmið verkefnisins er ennfremur að skapa vettvang fyrir nýsköpun og að efla samkeppnishæfni fyrirtækja, menntastofnana og nemenda á Reykjanesi. Smiðjur sem þegar eru í Keili munu renna inn í Fab Lab smiðjuna, svo sem Hakkit, Smiðjan og efnafræðistofan. Þá verður aðstaðan í Fjölbrautaskóla Suðurnesja notuð ef þörf krefur. Að sögn Hjálmars Árnasonar, framkvæmdastjóra Keilis, er Fab Lab smiðjan góð viðbót við starfið í Keili.
Óvenjulegt í sumarlok
●●segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarog viðskiptaráðherra sem sækist eftir áframhaldandi forystusæti ■■„Þessi prófkjörsbarátta er óvenjuleg að því leyti til að hún fer fram í sumarlok, á óhefðbundnum tíma. Þannig hefur hún verið bæði stutt og snörp en að sama skapi málefnaleg og hefur gengið vel. Ég finn fyrir miklum stuðningi alls staðar í kjördæminu og er afar þakklát fyrir það. Við sjáum að nú eru viðfangsefnin önnur en fyrir síðustu kosningar, sem helgast af því að okkur hefur tekist að klára þau mál sem þá brunnu á kjósendum. Núna eru áherslumálin skýr - samgöngumál, heilbrigðis- og velferðarmálin brenna á kjósendum alls staðar í kjördæminu. Við sögðum fyrir síðustu kosningar að verðmætasköpun væri forsenda velferðar. Við höfum lagt áherslu á efnahagsmálin og atvinnumálin á þessu kjörtímabili og höfum því sterkan grunn til að byggja velferðina á. Það er verkefni næsta kjörtímabils,“ segir Ragnheiður Elín.
HÚSASMIÐJAN LEITAR
AÐ ÖFLUGUM LIÐSMANNI Húsasmiðjan vill ráða helgarstarfsmann í verslun fyrirtækisins í Reykjanesbæ í vetur og í sumarafleysingar næsta sumar. Þarf að hefja störf sem fyrst. Ábyrgðarsvið • Almenn afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini.
Húsasmiðjan leggur metnað sinn í að veita fyrsta flokks þjónustu og hafa gott aðgengi að vörum sínum og starfsfólki. Það sem einkennir starfsmenn Húsasmiðjunnar eru
Hæfniskröfur • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð • Samskiptahæfni • Íslenskukunnátta (tala og skrifa) • Æskilegur aldur 17 +
eftirfarandi gildi:
Metnaður Þjónustulund Sérþekking
Umsóknir berist fyrir 15 september nk. Umsóknir berist til einarr@husa.is Einnig er hægt að sækja um hjá rekstrarstjóra í versluninni á Fitjum. Byggjum á betra verði
H L U T I A F BY G M A
Hann bendir á að nemendur í 7. og 8. bekk í Háaleitisskóla á Ásbrú hafi tekið nýsköpun sem valgrein og segir gaman að sjá af myndum úr starfinu hve skemmtilegt þeim þyki. „Það er einmitt tilgangurinn, að örva tækniog nýsköpunarhugsun og áhuga meðal skólafólks og almennings. Það er það sem atvinnulífið kallar eftir og nú er verið að svara því,“ segir Hjálmar. Hakkit smiðjan í Keili hefur verið opin í nokkrar klukkustundir á viku fyrir almenning og er hópur fólks sem alltaf mætir og fær útrás fyrir sköpunarkraft sinn. „Fólk hefur búið til ýmsa nytjahluti og skrautmuni. Það er virkilega gaman að sjá hvernig sköpunargleðin örvar fólk og veitir því gleði.“ Í Fab Lab smiðjum eru kennd undirstöðuatriði stafrænnar framleiðslutækni; frá þrívíddarhönnun, til framleiðslu hluta og forritunar með hjálp tölvustýrðra tækja og tóla. Í Fab Lab smiðjunni í Keili verður allra handa tækjabúnaður, til dæmis stór fræsivél til að búa til stóra hluti úr tré og plasti, lítil fræsivél til að fræsa rafrásir eða í þrívídd til mótagerðar, þrívíddarprentari, laserskerar til að skera út hluti í til dæmis pappa, plexígler, MDF eða við og merkja í gler, svo dæmi séu tekin. Þá verður í smiðjunni vinylskeri til að skera út límmiðafilmur og koparfilmur til að gera sveigjanlegar rafrásir. Í smiðjunni verður einnig rafeindabúnaður, sem hægt er að lóða á rafrásabrettin og forrita ásamt ýmsum gerðum af skynjurum. Þá verður einnig þrívíddarskanni og fjöldi tölva, hlaðinn opnum og frjálsum hugbúnaði til þess að hanna og búa til nánast hvað sem er. Fab Lab Reykjanes er hluti samstarfsnets Fab Lab smiðja á Íslandi. Fab Lab Reykjanes tengist jafnframt alþjóðaneti Fab Lab smiðja, Fab Foundation sem Nýsköpunarmiðstöð er aðili að.
Ökuníðingi veitt eftirför ■■Ökumaður, sem mældist á 174 km. hraða á Reykjanesbraut sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglunnar á Suðurnesjum heldur hélt för sinni áfram. Honum var því veitt eftirför dágóðan spöl þar til bifreið hans var stöðvuð á móts við Seltjörn. Hann þurfti að greiða á annað hundrað þúsund krónur í sekt. Tíu ökumenn til viðbótar hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum, þar af rúmlega helmingur erlendir ferðamenn. Þá var óvenjumikið um að ökumenn legðu bifreiðum sínum ólöglega því níu voru staðnir að því. Einnig bar á því að fólk væri ökuréttindalaust undir stýri, sinnti ekki stöðvunarskyldu eða talaði í síma án tilskilins búnaðar.
4
VÍKURFRÉTTIR
EFTIRLAUNASJÓÐUR REYKJANESBÆJAR Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar tilkynnir: Stjórn Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum þ. 24. ágúst 2016 að óska eftir viðræðum við Brú, lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga, um mögulega sameiningu við B-deild sjóðsins. Í ljósi góðra undirtekta samþykkti stjórnin síðan eftirfarandi viljayfirlýsingu á fundi sínum þ. 5. sept. sl.: Viljayfirlýsing: Stjórn Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar samþykkir að hefja viðræður um sameiningu sjóðsins í B-deild Brúar, lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga. Það felur í sér að eignasafn sjóðsins og eignasafn B-deildar verða sameinuð í eitt safn, að skuldbindingum sjóðsins, hvers réttindasafns og annarra launagreiðenda verði haldi aðgreindum og að réttindi og réttindaávinnsla sjóðsfélaga verði óbreytt. Fyrir hönd sjóðsins mun Gréta J. Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri sjóðsins, leiða ofangreindar viðræður. Samþykkt á stjórnarfundi þ. 5. september 2016 Kjartan Már Kjartansson, formaður Ásdís María Óskarsdóttir Guðný Bachmann Jóelsdóttir Allar nánari upplýsingar veitir Greta J. Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Eftirlaunasjós Reykjanesbæjar, netfang; greta.sigurdardottir@reykjanesbaer.is
AÐALFUNDUR
SAMTAKA ATVINNUREKENDA Á REYKJANESI verður haldinn 14. september nk kl. 12:00 á Park Inn hótelinu í Reykjanesbæ. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin
AT V I N N A Kef Restaurant óskar eftir þjónum í aukavinnu nokkrum sinnum i viku Vinnutími frá kl. 17:00 - 22:00. Vinsamlegast sendið inn umsóknir á jenny@kef.is.
Vatnsnesvegi 12 // 230 Reykjanesbæ // 420 7011
fimmtudagur 8. september 2016
BASE HÓTEL í gömlu vopnabúri ●●Skúli Mogensen í WOW opnar 120 herbergja hótel á Ásbrú ●●Glæsilegt nútímalistasafn á hótelinu l Hefur trú á Reykjanessvæðinu „Það er ánægjulegt að sjá hversu glæsilegar viðtökurnar hafa verið. Margir hafa lagt á sig mikla og óeigingjarna vinnu til þess að sjá þetta hótel verða að veruleika. Ég vona að hótelið muni koma til með að efla enn frekar Reykjanessvæðið sem er mjög fallegt og hefur margt skemmtilegt upp á að bjóða sem ferðamannastaður en jafnframt er gaman að geta sett upp eitt öflugasta nútímalistasafn landsins á Reykjanesi,“ segir Skúli Mogensen eigandi Base hótels á Ásbrú en það var opnað formlega á fimmtudag á Ljósanótt. Skúli sagði í opnunarræðu að hann væri að fylgja eftir orðum sem hann viðhafði í fyrra um Reykjanessvæðið, að það væri „flottasta stelpan á ballinu“. Hann fékk líklega valdamestu konuna á Suðurnesjum til að opna hótelið formlega með sér, ráðherrann Ragnheiði Elínu Árnadóttur, ferðamálaráðherra. Hún sagði að þetta væri ákaflega skemmtilegt tilefni og það væri gaman að fylgjast með uppbyggingunni hjá Skúla og WOW. Richard Henry Eckard, hótelstjóri á Base segir að bygging hótelsins sé búin að vera mikið ævintýri en hann var ráðinn til starfans í lok maí og hóf störf hálftíma eftir að starfsviðtalinu lauk. „Ég var svo sannarlega til í þetta starf og var mættur á fund með hönnuðum þegar í stað. Við náðum að opna í byrjun júní þó svo að ýmislegt hafi vantað upp á en það hefur verið nánast uppbókað síðan þá. Ég er mjög ánægður með hvernig til hefur tekist og er bjartsýnn á framtíð Base,“ sagði Richard sem vann síðustu fimmtán árin við hótelrekstur í Danmörku. Á Base eru 121 herbergi, allt frá kojum upp í svítur og stór fjölskylduherbergi. Á Base er lagt upp með að bjóða mjög fjölbreytt úrval af gistingu. Skúli Mogensen sagði í opnunarræðu að bygging Base væri eins og margt annað hjá Wow, gert á methraða og það hefði tekist með miklum dugnaði Richards og fjölskyldu og fleiri aðila. Nafnið Base hótel vísar í það tímabil þegar bandaríski herinn hafði þar að-
Skúli og Richard hótelstjóri á Base hótelinu.
Séð inn í eina af svítum Base hótelsins. VF-myndir/pket.
setur og er með nafngiftinni og útliti hótelsins, sem er málað í felulitum, verið að halda þeirri sögu í heiðri. Jafnframt eru tugir listaverka til sýnis á hótelinu eftir marga af okkar fremstu nútímalistamönnum. Í hluta húsnæðisins á tímum Varnarliðsins voru geymd vopn og er hægt að sjá smá eftirstöðvar „vopabúrsins“ á nýja hótelinu, einnig ýmsa smáhluti sem tengjast stríðinu. Staðsetning hótelsins er einkar hagkvæm fyrir ferðamenn. Nálægð hótelsins við flugvöllinn gerir þeim sem hyggjast staldra stutt við á Íslandi, á leið sinni til fjarlægari landa, auðveldara fyrir.
Gaman að geta sett upp eitt öflugasta nútímalistasafn landsins á Reykjanesi
www.kia.com
7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum
Hönnunin er Crossover — eðlið er Hybrid Við frumsýnum Kia Niro Hybrid
Laugardaginn 10. september frá kl. 12–16 Umhverfisvitund og akstursánægja sameinast í Kia Niro, fyrsta Hybrid bílnum frá Kia. Hann er aflmikill með karakter jepplings, umhverfismildur og áreiðanlegur, leitast alltaf við að keyra á rafmagni — og eyðir aðeins frá 3,8 l/100 km í blönduðum akstri. Honum fylgir svo að sjálfsögðu hin einstaka 7 ára ábyrgð.
Komdu í K.Steinarsson og reynsluaktu Kia Niro Hybrid. Við tökum vel á móti þér. K. Steinarsson · Holtsgötu 52 · 260 Reykjanesbæ · 420 5000 · ksteinarsson.is Söluaðili Kia
Verð frá 4.290.777 kr. Mánaðarleg afborgun 35.777 kr.* Kia Niro Hybrid — bensín og rafmagn, 3,8 l/100 km, sjálfskiptur DCT– 6 *m.v. 50% útborgun og lán í 84 mánuði með 8,75% vöxtum og árlegri hlutfallstölu kostnaðar 10,45%
Fylgdu okkur á Facebook. facebook.com/kiamotorsisland
6
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 8. september 2016
RITSTJÓRNARPISTILL Páll Ketilsson
VANDI STJÓRNMÁLAMANNA Stjórnmálamönnum er nokkur vandi á höndum en stjórnmálaflokkarnir vinna nú að því hörðum höndum að raða upp á lista fyrir komandi kosningar sem verða í lok október. Sjálfstæðismenn í Suðurkjödæmi eru til dæmis með prófkjör á laugardag en ellefu einstaklingar bjóða sig fram og sex þeirra eru búsettir á Suðurnesjum. Trú almennings á Alþingi hefur aldrei verið minni og í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík um síðustu helgi var þátttaka helmingi minni en síðast þegar prófkjör var haldið, fyrir þremur og hálfu ári síðan. Á kynningarfundi vegna prófkjörs í Suðurkjördæmi hjá Sjálfstæðisflokknum í vikunni mættu á annað hundrað manns en mikill meirihluti fundargesta var fólk um og yfir miðjan aldur. En kannski er það ekki ný frétt að ungt fólk mæti ekki á pólitíska fundi. Það nálgast pólitíkina meira á samfélagsmiðlum. En það hlýtur því að vera eitt af verkefnum nýrra þingmanna á Alþingi í haust að gera eitthvað í því að hífa upp tiltrú og áhuga fólks á stjórnmálum og Alþingi. Og það þarf að nálgast unga fólkið á þeim stöðum sem það sækir sem eru líklega frekar netheimar en raunheimar. Á kynningarfundi Sjálfstæðisflokksins á Suðurnesjum voru heitustu málefnin og það sem flestir ræddu um samgöngur, heilbrigðsmál, málefni aldraðra og húsnæðismál. Atvinnumál sem voru mál málanna fyrir síðustu alþingiskosningar, voru nánast ekki rædd. Það er kannski ekki að furða þar sem atvinnuleysi hefur ekki verið minna í manna minnum. Nú er málið hvernig krónum og aurum verður ráðstafað. Staða ríkissjóðs hefur aldrei verið betri. Verulegum hagvexti er áfram spáð með tilheyrandi áframhaldandi aukningu ferðamanna. Margir Suðurnesjamenn hafa hins vegar áhyggjur af stöðu mála í Helguvík, til dæmis hvernig kísilver, eitt eða tvö, ætla að manna starfsemina. Nokkur umræða varð um kaup og kjör í kísilveri United fyrr í sumar en þá gagnrýndi verkalýðsforingi í Keflavík kísilverið og sagði að það yrði í vanda með að manna það með Íslendingum ef það greiddi ekki hærri laun en lámarkstaxta. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þau mál þróast en United stefnir að því að hefja framleiðslu nú á haustdögum. Það er að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um Ljósanæturhátíðina en hún heppnaðist afar vel og flestir eru sammála um það að aldrei hafi fleiri heimsótt Reykjanesbæ en einmitt þessa helgi. Veðurguðirnir spila nokkuð hlutverk og þar sem þeir voru í óvenju góðu skapi mættu eflaust fleiri á svæðið og nutu ótrúlega fjölbreyttrar dagskrár. Þátttaka heimamanna var mikil, margir viðburðir voru mikið sóttir, verslun var blómleg og skipulagning til sóma. Allt sem samt í fínum málum.
Auglýsingasíminn er
421 0001
„SÖGÐU AÐ ÉG VÆRI KLIKKAÐUR AÐ FARA ÚT Í ÞETTA“ ●●Bistroinn við sjóinn slær í gegn hjá heimamönnum Það voru ekki margir sem höfðu trú á því að veitingastaður í miðju frystihúsahverfinu í Keflavík myndi gera það gott. Það gerði hins vegar veitingamaðurinn Örn Garðarsson þegar hann ákvað að opna veitingastað við Hrannargötu í húsnæði sem stendur alveg við sjóinn. Útsýnið er reyndar upp á milljón dollara og hefur það eflaust mikið aðdráttarafl. Örn býr yfir mikilli reynslu úr veitingageiranum, hefur rekið veitingastaðinn á Hótel Borg og Glóðina og var hann einnig lengi vel fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins. Hann hefur rekið Soho veisluþjónustu frá 2007 í einmitt þessu sama húsnæði við Hrannargötu.
Friðrik kominn heim ●●Beið í fimm mánuði á Landspítalanum
„Það er mjög gott að vera kominn heim og ég er glaður að það hafi tekist að ráða hingað starfsfólk,“ segir Friðrik Guðmundsson sem hafði beðið eftir því í um fimm mánuði að snúa aftur heim til sín, á sambýli við Lyngmóa í Reykjanesbæ. Friðrik er með sjaldgæfan erfðasjúkdóm og fékk hjartastopp í lok mars. Síðan þá hefur hann notað öndunarvél allan sólarhringinn og því þurfti að fjölga stöðugildum á sambýlinu en í vor var óljóst hvernig aukningin yrði fjármögnuð og því gat Friðrik ekki snúið aftur heim. Í byrjun júní komst svo hreyfing á málið og bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti fjárveitingu og gerir ráð fyrir að fjármagn komi frá Jöfnunarsjóði. Nú er búið að ráða fjóra nýja starfsmenn á sambýlið og hafa þeir verið í þjálfun að undanförnu. Friðrik hefur dvalið á lungnadeild Landspítalans síðustu mánuði og er því búinn að kynnast starfsfólkinu þar vel og ber þeim vel söguna. Meðan á spítaladvölinni stóð tók Friðrik þátt í prófkjöri Pírata í Suðurkjördæmi. „Ég fór mun sjaldnar út þegar ég dvaldi á spítal-
Friðrik heima á Lyngmóanum með kettinum Tígra. VF-mynd/dagnyhulda
anum en ég geri hér heima og það var því svolítið erfitt að taka þátt í prófkjörinu. Það var þó strákur frá Rauða krossinum sem kom reglulega til mín og fór með mér út og saman sóttum við marga Píratafundi,“ segir hann. Heimkoman langþráða var rétt fyrir Ljósanótt og því nýtti Friðrik tæki-
færið og sótti Hjólbörutónleikana og Með blik í auga. Á Hjólbörutónleikunum var Friðriki boðið að velja sér óskalag og valdi Leiðin okkar allra sem þekkt er með Hjálmum sem hann segir hafa hentað vel sem heimkomulag. dagnyhulda@vf.is
„Það voru margir kollegar mínir sem sögðu við mig að ég væri klikkaður að fara út í þetta aftur og opna veitingahús á þessum stað. Fólk þarf að vita af staðnum, það dettur enginn inn á hann á rölti um aðalgötuna. En það gerir þetta soldið djúsí,“ segir Örn en hugmyndin fæddist vegna þess að Örn taldi að ekki væri verið að nýta húsnæðið nægilega vel. Hann opnaði fyrst í október í fyrra en lokaði aftur um áramót vegna framkvæmda á staðnum. Nú hefur verið opið frá mars á þessu ári og er staðurinn sífellt að vaxa í vinsældum meðal heimamanna. „Það hefur gengið frábærlega að undanförnu, alveg geðveikt að gera. Mér fannst synd að nýta ekki húsnæðið með þessu flotta útsýni yfir hafið og Bergið og greinilega er mikil þörf hér í bænum á „bistro“,“ en starfsemin hentar vel með veisluþjónustunni að sögn Arnar.
Ætlaði ekki aftur út í rekstur veitingastaðar
„Ég ætlaði mér ekki út í veitingarekstur, ég hafði fengið alveg nóg af því en þetta blundar alltaf í manni, er spennandi og skemmtilegt,“ viðurkennir veitingamaðurinn snjalli. Traffíkin hefur aukist gríðarlega undanfarna mánuði, en staðurinn er með opið í hádeginu frá klukkan 11-14. Fyrst um sinn seldust um 30-60 skammtar á dag en nú eru þeir aldrei undir hundrað. Örn leggur mikið upp úr því að gera hráefni frá grunni og þannig hafa brauðin hans notið mikilla vinsælda. Hann segir saumaklúbba og stærri hópa koma í miklum mæli til þess að fá brauð hjá honum. „Það er mikil upphefð fyrir mig að fólk geri sér ferð hingað til að kaupa brauð af kokkinum. Við gerum einnig heimalagað pestó sem fólk kaupir með brauðunum. Áður fyrr gerði ég um 4 kg af því á viku en er núna að gera 40 kg.“ Því er ljóst að umsvifin hafa aukist talsvert hjá Erni og félögum á Soho. „Vinnuvikan er ansi strembin í þessum bransa. Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá er ég eflaust að vinna 350 tíma á mánuði. Nú þegar vel gengur í þjóðfélaginu þá finnur
maður vel fyrir því. Fólk er að leyfa sér meira.“ Eins og staðan er núna þá er staðurinn opinn í hádeginu en Örn segir að vel komi til greina að hafa jafnvel opið á kvöldin fimmtudag, föstudag og laugardag enda eru gestir farnir að biðja um frjálslegri opnunartíma. „Ferðamönnunum finnst gaman að koma, finnst sérstök stemning að koma á veitingastað hérna í iðnaðarhverfi og hvað þetta er falið. Ég hef spjallað við marga útlendinga sem finnst þetta langbesti og ódýrasti matur sem þau hafa fengið á ferð sinni um landið.“
Vildi ekki kokk sem er allur í froðum og litlum steikum
Soho hefur nýlega ráðið til starfa nýjan kokk, Elías Örn Friðfinnsson sem er nýfluttur aftur til heimabæjarins Reykjanesbæjar eftir að hafa búið í höfuðborginni og lært kokkinn á Hótel Sögu og starfaði nú síðast sem matreiðslumaður á veitingastaðnum Kopar. „Ég var rosalega heppinn að næla í hann og það er afrek út af fyrir sig að hafa náð í mann sem býr hérna suður frá. Það er alls ekki sjálfgefið. Ég var ansi djarfur þegar ég auglýsti eftir kokki, vildi helst ekki fá svona nýmóðins kokk sem er allur í froðum og litlum steikum, heldur býr til almennilegan mat og er tilbúinn að vinna með gömlum karli og læra meira.“ Þó nóg sé að gera hérna á heimaslóðum þá er það nú svo að mikill meirihluti viðskipta Soho eru á höfuðuborgarsvæðinu. „Nánast 90% af okkar viðskiptum í veisluþjónustunni er í Reykjavík þannig að við erum stanslaust á brautinni. Stórfyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu eru dugleg að versla við okkur en einnig fyrirtækin á flugvellinum,“ segir Örn áður en hann heldur aftur til eldamennskunnar.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
8
VÍKURFRÉTTIR
LAUS STÖRF BJÖRGIN VELFERÐARSVIÐ FRÆÐSLUSVIÐ HÆFINGARSTÖÐ HÆFINGARSTÖÐ
Ráðgjafar óskast Störf með fötluðum einstaklingum Dagforeldrar óskast Starfsmaður óskast Starfsmaður í ræstingar óskast
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
VIÐBURÐIR LÉTTUR FÖSTUDAGUR Á NESVÖLLUM Vetrardagskrá FEBS verður kynnt á Léttum föstudegi 9. september kl. 14:00. Allir hjartanlega velkomnir. ÁLFABÆKUR OG SEKTARLAUS DAGUR Í tilefni Bókasafnsdagsins fimmtudaginn 8. september falla allar sektir niður á bókum sem komnar eru fram yfir lánstíma í Bókasafni Reykjanesbæjar. Einnig minnum við á myndverkasýninguna Álfabækur fyrir alla fjölskylduna. UPPSKERUHÁTÍÐ SUMARLESTURS Þriðjudaginn 13. september kl. 17.00 er boðið til uppskeruhátíðar Sumarlesturs í Bókasafni Reykjanesbæjar. Ævar vísindamaður kemur og les úr óútgefinni bók sinni Þín eigin hrollvekja! Allir hjartanlega velkomnir. HEILSU- OG FORVARNARVIKA Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar verður haldin 3. - 9. október nk. Þátttökutilkynningar berist á netfangið heilsuvika@reykjanesbaer.is fyrir 23. september.
HAUSTFERÐ ELDRI BORGARA
fimmtudagur 8. september 2016
ELDRI FS-INGUR ■■Í haust mun Fjölbrautaskóli Suðurnesja fagna 40 ára afmæli sínu og til stendur að halda uppá daginn 24. september næstkomandi. Fjölbrautaskóli Suðurnesja, eða FS, hefur í gegnum árin boðið uppá fjölbreyttar námslínur og því alið af sér einstaklinga sem sinna hinum ýmsu störfum atvinnulífsins, bæði hérlendis og erlendis. Því er vel við hæfi að leita uppi gamla FS-inga og forvitnast um hvað á daga þeirra hefur drifið. Sumir þeirra luku stúdensprófi frá skólanum, aðrir luku iðnmenntun en enn aðrir komu við í skemmri tíma. Fram að afmælinu ætlum við að leita uppi gamla FS-inga.
40 ÁRA
Föstudagarnir voru oft góðir Hvenær varstu við nám í FS? Ég stundaði nám við rafiðnaðarbraut FS 1981-1985 og var í fyrsta útskriftarhópi verknámsdeildar rafiðna. (vorum reyndar bara tveir) Ég tók meistaranám í rafvirkjun hjá FS og Rafiðnaðarskólanum. Hvað hefurðu verið að gera síðan þú útskrifaðist úr FS? Eftir útskrift vann ég hjá meistara Sigurði Ingvarssyni í rúm tvö ár. Ég fór í sjálfstæðan rekstur 1988 og hef síðan unnið sjálfstætt. Ég hef verið framkvæmdastjóri hjá Rafholti ehf frá stofnun fyrirtækisins. Hjá Rafholti starfa í dag milli 70 og 80 rafvirkjar og tæknimenn og eru starfsstöðvar í Kópavogi og í Reykjanesbæ. Hvernig skóli er FS í þínum augum? FS er skemmtilegur skóli og góður kostur fyrir fólk á Suðurnesjum.
Vel var staðið að kennslu hjá FS þegar ég var nemandi þar og var Guðmundur Guðbjörnsson mikill brautryðjandi rafiðnaðargreinanna fyrstu árin. Viltu deila með okkur eftirminnilegum minningum úr gamla skólanum þínum? Við enduðum skólavikuna í sér húsnæði rafiðnaðardeildarinnar sem var þá staðsett á Iðavöllum. Því miður get ég ekki klárað þessa sögu en þessir föstudagar voru oft nokkuð góðir. Hvað stendur upp úr þegar þú horfir til baka? Félagsskapurinn er það sem stendur upp úr eftir veruna í FS. Hver var eftirminnilegasti kennarinn?
Helgi Rafnsson Guðmundur Guðbjörnsson og Gísli Torfa. Uppáhalds náttúruperla á Suðurnesjum? Ekki spurning – Hraunsvegurinn í Njarðvík
Opin æfing hjá Kvennakór Suðurnesja
■■Kvennakór Suðurnesja býður öllum konum sem hafa áhuga á að syngja og vilja taka þátt í skemmtilegum félagsskap á opna æfingu að Skógarbraut 932 á Ásbrú í Reykjanesbæ, miðvikudaginn 14. september kl. 20:00. Það er margt skemmtilegt framundan hjá kórnum og má þar nefna jólatónleika ásamt Vox Felix og barnakór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, landsmót kvennakóra á Ísafirði í maí 2017 og 50 ára afmæli kórsins í febrúar 2018, ásamt vortónleikum og fleiri
viðburðum. Stjórnandi kvennakórsins er Dagný Þórunn Jónsdóttir söngkona og meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir. Æfingar eru á miðvikudögum kl. 20 og raddæfingar á mánudögum kl. 20.
Áhugasamar konur eru hvattar til að kíkja á opna æfingu og kynna sér starfsemi kórsins. Auk söngsins verður slegið upp Pálínuboði að hætti kórkvenna.
TIL VESTMANNAEYJA 22. SEPTEMBER Ef ekki verður farið til eyja vegna veðurs, verður ferðinni heitið á Njáluslóðir. Verð Í ferð er kr. 10.000.- til 12.000,Skráning í ferðina hefst í dag 1. september. Skráning lýkur 14. september á Nesvöllum, þá verða allir að borga staðfestingargjald kr. 5.000,Lydía s. 423-7604 / 898-4654 Bjarney s. 421-1961 / 822-1962 Örn s. 846 7334 Rútan fer frá: Auðarstofu, Garði kl. 8.00 Miðhúsum, Sandgerði kl. 8.30 Nesvöllum, Reykjanesbæ kl. 9.00 Stoppað verður við afleggjara að Grindavík. Gjald greitt í Rútu – tökum ekki kort. Geymið auglýsinguna Ferðanefnd
BREYTING Á AÐALSKIPULAGI GARÐS 2013-2030 IÐNAÐARSVÆÐI – BERGHÓLAR
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs samþykkti þann 14. júlí sl. tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Garðs 2013-2030 skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að afmarkað er iðnaðarsvæði, þar sem áður var skilgreint óbyggt svæði og varnar- og öryggissvæði. Svæðið mun tilheyra I1 Helguvík/Berghólar. Greinargerð með rökstuðningi er á uppdrætti dags. 8. júlí 2016 í mkv. 1:15.000. Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Sveitarfélagsins Garðs. Magnús Stefánsson Bæjarstjóri
kt Ísleanks jöt Grís
498 kr. kg
nskt Ísleik on
Min
ungnautakjöt
1.598 kr. kg 200kr
Stjörnugrís Beikon Meira kjöt - Minni fita
verðlækkun pr.
I PEPPERON
395
Ali Grísabógur Ferskur
1Ís0lens0kt%
Íslenskt
kr. pk.
kr. kg
GOTT VERÐ Í BÓNUS
Be
t Meirani kfitjö a
598
Danpo Kjúklingur Danskur, heill, frosinn
Stjörnugrís Pepperoni 180 g
kg
1.698 kr. kg Íslandsnaut Ungnautahakk Verð áður 1898 kr. kg
398 kr. 220 g
Danskt Salami 220 g
rir Bestktfy óber 20. o
259 kr. pk.
Santa Maria Tortilla Herb & Garlic, 6 stk.
Íslensktöt
Lambakj
Mjólkurlaus
298 kr. 1 l
1.398 kr. kg Bónus Sorbet Ís 1 lítri, 2 teg.
Íslandslamb Lambalæri Ferskt, kryddað, sérskorið
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 11. september eða meðan birgðir endast
10
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 8. september 2016
FJÖLMENNASTA LJÓSANÆTURHÁTÍÐIN FRÁ UPPHAFI ■■Þúsundir heimamanna og gesta skemmtu sér konunglega á 17. Ljósanæturhátíð í Reykjanesbæ. Hátíðin er líklega með þeim fjölmennustu á þeim 16 árum sem hún hefur verið haldin og heimamenn eru á einu máli um að sjaldan hafi hún verið eins skemmtilegt. Hér spilar veðrið að sjálfsögðu stórt hlutverk og var veðurguðunum sérstaklega þakkað. Markmið hátíðarinnar var þátttaka heimamanna og Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar segir að það hafi svo sannarlega gengið eftir. Tónninn var gefin í örlítið breyttri setningu hátíðarinnar við Myllubakkaskóla en síðan hafi hver viðburðurinn rekið annan,
allt frá litlum listsýningum yfir í stóra viðburði eins og tónleikar Magnúsar Kjartanssonar á stóra sviðinu, mögnuð árgangaganga og heimatónleikar í gamla bæ Keflavíkur. Yfir 5 þúsund kjötsúpuskammtar rötuðu ofan í maga gesta og nærri 1500 manns fóru á hátíðartónleika Bliks í auga sem voru með kántrýstíl að þessu sinni. Þá þótti flugeldasýning í boði HS Orku mögnuð og tilkomumikil í einstöku umhverfi Keflavíkurbjargs að viðstöddum tuga þúsunda gesta. Í tilkynningu frá forsvarsmönnum Ljósanæturhátíðar og Reykjanesbæjar færa þeir heimamönnum og gestum þakkir fyrir frábæra fjögurra daga hátíð og bjóða þá velkomna á næstu Ljósanótt.
Þakkir að lokinni Ljósanótt S au t j á n d a Lj ó s a n æ t u r h át í ð Reykjanesbæjar fór fram nú um helgina og tókst einstaklega vel. Veðurguðirnir léku við hvern sinn fingur og bæjarbúar og gestir einnig. Fjöldi tónleika, listsýninga og annars konar viðburða fór fram um allan bæ frá morgni til kvölds og voru vel sóttir. Þúsundir gesta heimsóttu Reykjanesbæ og vil ég nota tækifærið og þakka öllum sem lögðu hönd á plóg við undirbúning og framkvæmd hátíðarinnar sem við getum öll verið mjög stolt af. Einnig er ástæða til að þakka þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem styrktu verkefnið með fjárframlagi.
Með kveðju, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri
Páll Óskar tryllti lýðinn með skemmtilegri framkomu og lögum. Magnús Kjartansson og hljómsveit léku nokkur lög kappans í gegnum tíðina.
fimmtudagur 8. september 2016
11
VÍKURFRÉTTIR
Risablöðrur voru áberandi innan um þúsundir ungra gesta við setningu Ljósanætur við Myllubakkaskóla.
Skemmtileg drónamynd frá Ozzo ljósmyndara, mannhafið fyrir framan stóra sviðið á laugardagskvöldi.
Áragangagangan hefur aldrei verið fjölmennari, árangur 1966 með Árelíu Eydísi Guðmundsdóttir í fararbroddi skemmtu sér vel.
Bæjarstjórnarbandið tók nokkur lög á litla sviðinu á Bryggjuballi.
Yfir 5 þúsund súpuskammtar runnu út á tveimur klukkustundum, í boði Skólamatar.
Bílar og ýmis farartæki runnu niður Hafnargötuna.
Tískuverslunin Kóda var með tískusýningu á Hafnargötunni.
Sundkrakkar úr ÍRB syntu í sjónum frá Njarðvík yfir í Keflavík. Hvernig ertu í kántrýinu var heiti hátíðartónleika Bliks í auga að þessu sinni.
Heimatónleikar heppnuðust frábærlega í gamla bænum í Keflavík og voru á fernum heimilum. Ljósmyndirnar frá Ljósanótt tóku ljósmyndarar Víkurfrétta og Ozzo.
Erla Guðmundsdóttir sóknarprestur í Keflavík bauð á heimatónleika en hún keypti líka mynd af Jesú að pissa.
12
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 8. september 2016
Guðjón og Ragnheiður með Árna föður sínum og Önnu Þorgrímsdóttur föðursystur.
Valdimar og Björgvin Ívar spiluðu og sungu.
Óvæntur gestur í götupartýi ferðamálaráðherrans ■■Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra bauð ásamt manni sínum í götupartý á Ljósanótt. Fjöldi manns mætti í fjörið en meðal óvæntra gesta var ferðamaður frá Asíu. „Þetta var skemmtilegt og það er á hreinu að þetta verður endurtekið á næsta ári.,“ sagði Ragnheiður um hvernig til hafi tekist en þekkti hún óvæntan gest sem kom, ferðamanninn?
Hver er ekki í dúnjakka á þessari mynd? Allir glaðir á Ljósanótt.
„Ég þekkti flesta, ef ekki alla í partýinu nema þenna óvænta gest. Ég ræddi reyndar ekki við hann en Guðjón bauð honum súpu. Við getum sagt að þetta hafi átt vel við, að fá einn af milljónum ferðamanna á þessu ári í óvænta heimsókn til ferðamálaráðherrans á Ljósanótt,“ sagði Ragnheiður Elín.
Ferðamaðurinn alsæll með súpuna.
SÝNINGAR OG TÓNLISTARFJÖR Á LJÓSANÓTT 2016
Það er vissara að mynda þetta og segja frá því að manni hafi verið boðið í partý hjá ráðherra á Íslandi. Hún Guðrún Ósk Guðjónsdóttir fór nettan ljósmyndarúnt fyrir VF á Ljósanótt. Hér eru nokkrar myndir úr þeirri ferð.
Íris Þrastardóttir Söring við „Palli er einn í heiminum“.
Fjórir listamenn voru með samsýningu í stóra sal Duus húsa.
Súper bassinn Jóhann Smári þenur raddböndin.
Magnús Kjartansson og Sönghópur Suðurnesja sungu í Duus.
Ungir tónlistarmenn stigu á litla sviðið.
Skvísur á bryggjuballi.
Listakonan Brynhildur Guðmundsdóttir sýndi í púttsalnum.
Listamaðurinn Ethoríó var með áhugaverð verk.
Listakonan Gulla Olsen við nokkur verka sinna.
Mystery Boy & Group Hugz eftir tónleika sína á Bryggjuballinu.
Skúli Thoroddsen við „hlýnun jarðar“.
Listakonan Tobba með pensil á striga.
14
VÍKURFRÉTTIR
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA Í SUÐURKJÖRDÆMI 10. SEPTEMBER 2016
Kjörstaðir verða á eftirtöldum stöðum: Reykjanesbær Opið kl. 10:00 - 18:00 Nesvöllum, Njarðarvöllum 4
Garður Opið kl. 10:00 - 18:00 Samkomuhúsinu
Grindavík Opið kl. 10:00 - 18:00 Húsakynni Sjálfstæðisfélagsins, Víkurbraut 27
Sandgerði Opið kl. 10:00 - 18:00 Samkomuhúsinu – litli salurinn
Rétt til þátttöku í prófkjörinu eiga allir flokksbundnir Sjálfstæðismenn í kjördæminu. Einnig geta þeir sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag, 29. október nk., tekið þátt í prófkjörinu með því að ganga í Sjálfstæðisflokkinn á kjördag. Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
fimmtudagur 8. september 2016
Afþreying:
GAMAN AÐ GÖMLUM ÍSLENSKUM LÖGUM
Thelma Rún Birgisdóttir er tvítugur Keflvíkingur sem starfar í farþegaaf-
greiðslunni hjá IGS. Thelma tók þátt í Ungfrú Ísland á dögunum. „ Það var frábær reynsla. Undirbúningurinn einkenndist mjög mikið af því að styrkja okkur sem einstaklinga. Við fórum t.d. á Dale Carnegie námskeið, tókum þátt í góðgerðarstörfum og lærðum að koma fram svo eitthvað sé nefnt. Ég fékk að kynnast æðislegum stelpum og gerðum við fullt af skemmtilegum hlutum saman í allt sumar. Ég hef bara gott að segja um þessa keppni, ég lærði svo ótrúlega mikið og eitt mjög mikilvægt, það að hafa trú á sjálfri mér,“ segir Thelma. Við fengum Thelmu til þess að segja okkur aðeins frá því sem hún gerir sér til afþreyingar. Hún hlustar mikið á gamla íslenska tónlist og finnst gaman að spennu- og sakamálaþáttum.
Bókin:
Síðasta bókin sem ég las heitir Hilma sem kom út á þessu ári og er eftir höfundinn Óskar Guðmundsson. Hilma er rannsóknalögreglukona sem fær að rannsaka gamalt morð sem rekja má til hrottalegs atburðar fyrir 23 árum. Söguþráðurinn er ótrúlega spennandi og er þessi bók virkilega vel skrifuð.
Tónlistin:
Síðustu vikur er ég búin að vera hlusta á sömu þrjú lögin soldið mikið en það er út af því að ég var á æfingum fyrir Ungfrú Ísland en svona daglega þá hlusta ég á alls konar tónlist. Mér finnst samt alltaf jafn gaman að hlusta á gömul íslensk lög.
Sjónvarpsþátturinn:
Mér finnst ótrúlega gaman að horfa á spennu- og sakamálaþætti en ég dett líka stundum inn í raunveruleikaþætti. Í dag er ég að horfa á Stranger Things sem eru frábærir þættir og svo horfi ég á Kardashian fjölskylduna svona í leyni.
Færri þurfa á fjárhagsaðstoð að halda í Reykjanesbæ ■■Færri þurfa á framfærslu og húsaleigubótum að halda í Reykjanesbæ ef horft er á þriggja mánaða tímabil milli áranna 2015 og 2016. Ef litið er til tímabilsins maí til júlí árið 2015 þá voru greiddar 45,2 milljónir í framfærslu hjá Reykjanesbæ. Árið 2016 var upphæðin hins vegar 34,5 milljónir króna. Undanfarna mánuði fækkaði umsóknum um endurnýjun á framfærslustyrk umtalsvert. Þannig voru 62 sem ekki endurnýjuðu umsóknir sínar um framfærslustyrk á meðan 45 nýjar umsóknir bárust. Sömu sögu má segja um húsaleigubætur. Í maí, júní og júlí voru samanlagðar húsaleigubætur rétt tæpar 100 milljónir árið 2015. Þegar sömu mánuðir eru skoðaðir nú í ár eru húsaleigubætur rétt rúmar 90 milljónir.
1. - 2. SÆTI SJÁLFSTÆÐISFÓLK
Í SÓKN! Ágætu kjósendur í Suðurkjördæmi! Stuðningsfólk Ásmundar Friðrikssonar minnir á prófkjör Sjálfstæðisflokksins 10. september næstkomandi og hvetjum ykkur til þátttöku.
Tryggjum Ásmundi örugga forystu!
HOLLUSTA Í NÆSTA NÁGRENNI
VEFJUR
SALÖT
KJÚKLINGARÉTTIR
Gríptu með þér hollan skyndibita þegar þér hentar. Kíktu til okkar, við erum í næsta nágrenni. Síðumúla 17 | Lágmúla 7, í 10-11 | Austurstræti 17, í 10-11 | Fitjum, Reykjanesbæ | ginger.is
GERIR ÞÉR GOTT
16
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 8. september 2016
Authorized Service Contractor
UPS óskar eftir bílstjóra Meðal verkefna bílstjóra eru útkeyrsla sendinga á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu. Innheimta greiðslna og samskipti við viðskiptavini. Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir og þjónustulundaðir. Aldurstakmark er 20 ár. Vinsamlega sendið umsókn í gegnum heimasíðu okkar www.express.is. UPS er stærsta og öflugasta hraðsendingafyrirtæki heims með þjónustunet til rúmlega 200 landa um allan heim. Undanfarin ár hefur UPS verið í mikilli sókn í Evrópu. Daglega eru afhentir tæplega 16 milljónir pakka um allan heim.
Tómas hefur fundið ýmislegt í hreinsunum Bláa hersins í gegnum tíðina. Þessi mynd var tekin árið 2008 þegar hann fann akkeri úr Jamestown en það hafði verið í sjónum í um 130 ár.
KOMINN MEÐ NÓG AF SJÁLFBOÐASTARFINU ●●Blái herinn hættur starfsemi í þeirri mynd sem verið hefur „Ég hef bara ekki orku í þetta lengur. Það er erfitt að fá sífellt nei þegar maður sækir um styrki,“ segir Tómas Knútsson hjá Bláa hernum en starfsemi hans hefur verið hætt í þeirri mynd sem verið hefur frá stofnun árið 1995. Tómas hefur skipulagt fjölda hreinsunarverkefna á vegum Bláa hersins í gegnum tíðina og í þeim hafa safnast yfir 1300 tonn af rusli, aðallega meðfram sjónum. Ýmsan tækjabúnað þarf til starfsins auk þess sem það er tímafrekt. Tómas hefur unnið í sjálfboðastarfi fyrir Bláa herinn og oft gengið erfiðlega að safna styrkjum.
Frá afhendingu tíundu kennsluvélar Flugakademíu Keilis í Diamond verksmiðjunum í Austurríki.
Tíunda kennsluvél Keilis Flugakademía Keilis tók í vikunni við nýrri DA40 kennsluvél í verksmiðju austurríska flugvélaframleiðandans Diamond. Nú hefur flugskólinn yfir að ráða tíu flugvélum frá Diamond, fimm tveggja sæta DA20, fjórar fjögurra sæta DA40 og eina tveggja hreyfla DA42. Flugvélin er önnur í kennsluvélin sem skólinn hefur tekið í notkun á árinu, en mikil aukning hefur verið í flugnám hjá Keili á undanförnum árum. Nýja vélin hefur fengið auðkennisstafina TF-KFI og er með tæknivæddustu kennsluvélum á landinu, búin fullkomnum blindflugsbúnaði, stórum tölvuskjám og nútíma flugmælitækjum, sjálfstýringu og veðursjá. Stian Skovro, flugkennari hjá Keili, tók við flugvélinni í Diamond verksmiðjunni í Austurríki 5. september og er áætlað að hún komi til landsins fljótlega.
Tæknivæddustu kennsluvélar á landinu
Floti kennsluvéla Flugakademíu Keilis er orðinn einn sá nýstárlegasti og yngsti í Evrópu, og er nýjustu vélinni ætlað að bregðast við aukinni
eftirspurn eftir flugnámi við skólann. Þá tók skólinn einnig í notkun fullkominn flughermi á síðasta ári að gerðinni Redbird en um er að ræða hreyfanlegan hátækni flughermi sem þýður uppá fjölbreytta notkunarmöguleika í þjálfun flugnemenda skólans.
Fullbókað í atvinnuflugmannsnám haustið 2016
Nú stunda hátt í tvö hundruð nemendur flugtengt nám við Keili, þar á meðal atvinnuflugmannsnám og flugvirkjanám. Flugakademía Keilis býður bæði upp á einkaflugmannsnám, samtvinnað atvinnuflugmannsnám (sameinað einka- og atvinnuflugmannsnám) og ATPL nám, og eru teknir inn nýir nemendur í námið þrisvar á ári. Fullskipað er í atvinnuflugmannsnám í haust en næst verður tekið við nemendum janúar. Vegna mikillar aðsóknar er áhugas ömum b ent á að s enda inn námsumsókn sem fyrst. Nánari upplýsingar um Flugakademíu Keilis má nálgast á www.flugakademia.is
Tómas hefur verið ötull talsmaður umhverfisverndar og vakið athygli á því hve mikið rusl safnast fyrir í sjónum og við strendur landsins. Fyrir störf sín hefur hann hlotið margar viðurkenningar sem hann segir alltaf gott klapp á bakið en að þeim fylgi aldrei neinir fjármunir sem nauðsynlegir séu til að starf Bláa hersins geti haldið áfram. Tómas hefur þó ekki misst áhugann á umhverfisvernd og vonar að á næstunni bjóði áhugasamt fólk sig fram til að sitja í stjórn Bláa hersins. „Stjórnin gæti þá safnað styrkjum og ráðið mig á launum til að stýra hreinsunarverkefnum. Þá myndi ég beita mér jafn mikið og í gegnum tíðina.“ Hann kveðst líta stoltur yfir farinn veg og vonar að Blái herinn geti starfað áfram í breyttri mynd því hann vill áfram láta gott af sér leiða.
Vill að fleiri sýni málefninu áhuga
Um síðustu mánaðamót tók Blái herinn þátt í fjölmennu hreinsunarverk-
Frá hreinsun í Selvogi á dögunum. Mynd/Sendiráð Bandaríkjanna
efni í Selvogi ásamt sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi, Landvernd og fleiri stofnunum og segir Tómas það hafa verið svanasöng Bláa hersins í upprunalegri mynd. „Hreinsun á rusli þarf að vera með öðrum hætti en að ég standi alltaf fyrir henni. Þetta er ekki einkamál mitt. Það þurfa miklu fleiri að sýna þessu brýna verkefni áhuga. Ef fólk almennt vill þetta mál ekki í forgang þá er ég ekki maðurinn til að vera alla daga að snapa peninga til að eiga fyrir bensíni og tryggingum. Ég gæti verið alla daga úti í náttúrunni með tíu manns og það sæi aldrei högg á vatni, svo mikið er af rusli hér.“
Tómas var næstum því búinn að gefast upp á harkinu fyrir tveimur til þremur árum en fékk þá óvæntan stuðning og ákvað því að halda áfram. Þá fór af stað verkefnið Our Ocean á vegum bandaríska ríkisins. Í góðu samstarfi Sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi og Bláa hersins hafa farið fram fjölmargar hreinsanir við strendur Íslands.
Var kallaður blöðrubani
Á Ljósanótt í Reykjanesbæ um síðustu helgi var setningarathöfnin með öðrum hætti en áður því grunnskólabörn slepptu ekki blöðrum. Tómas minntist á það á Facebook fyrir tveimur árum að nær væri að gróðursetja tré en að sleppa blöðrunum. „Stundum þarf maður að taka við leiðindum í baráttunni fyrir náttúruna og ég var kallaður blöðrubani en það hefur engin áhrif á mig. Þetta snýst um samfélagslega ábyrgð og að vera ekki að senda út röng skilaboð til barnanna. Þessar blöðrur fóru beint út á haf og urðu að fóðri fyrir fiskinn sem seldur er sem hágæðavara.“ Umhverfissýningin Saman gegn sóun fer fram í Perlunni núna um helgina og þar mun Tómas sýna þar listaverk úr rusli.
Fjölmenni kom saman í Selvogi um síðustu mánaðamót og hreinsaði rusl. Myndin var tekin í grillveislu á eftir. Mynd/Sendiráð Bandaríkjanna
dagnyhulda@vf.is
Við styðjum
Ragnheiði Elínu sæti
í 1. sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi 10. september
Baldur Guðmundsson
Ína Hrund Ísdal
Anna Sigríður Jóhannesdóttir
Árni Sigfússon
Aron Ingi Valtýsson
Jenný Rúnarsdóttir
Jón Guðlaugsson
Birgitta Káradóttir
Björk Þorsteinsdóttir
Anna María Sveinsdóttir
Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir
Halldís Bergþórsdóttir
Þorbjörg Guðnadóttir
Ásgeir Elvar Garðarsson
Jóna Rut Jónsdóttir
Lúðvík Gunnarsson
Lóa Rut Reynisdóttir
Páll Orri Pálsson
Pálmi Ketilsson
Ellert Eiríksson
Auður Erla Guðmundsdóttir
Stefán Bjarkason
Guðmundur Valdemarsson
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Kristín Jóna Hilmarsdóttir
Karen Valdimarsdóttir
Margrét Sanders
Sigrún Inga Ævarsdóttir
Sigurbjörg Róbertsdóttir
Sverrir M. Einarsson
18
VÍKURFRÉTTIR
AÐALFUNDUR
FRAMSÓKNARFÉLAGS REYKJANESBÆJAR 2016. Framsóknarfélag Reykjanesbæjar boðar til aðalfundar fimmtudaginn 15. september kl. 20:00 í Framsóknarsalnum Hafnargötu 62. Reykjanesbæ Dagskrá aðalfundar verður samkvæmt lögum félagsins. Gestur fundarins verður Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra Stjórn Framsóknarfélags Reykjanesbæjar.
MEIRAPRÓFSBÍLSTJÓRI DOOR2DOOR SHUTTLE SERVICE óskar eftir bílstjóra í fullt starf. Unnið er á vöktum 2-2-3 eða eftir samkomulagi. Starfið felur í sér akstur með flugfarþega á milli Hótela í Reykjanesbæ og Flugstöð Leifs Eiríkssonar ásamt ferðum í Bláa Lónið, Reykjavík og dagsferðum um landið. Meirapróf D er skilyrði. Nánari upplýsingar i síma 852-9509 eða info@shuttle.is
fimmtudagur 8. september 2016
Stillum upp góðu liði Ég, Ísak Ernir Kristinsson, hef ákveðið að gefa kost á mér í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri flokksins sem fram fer 10. september næstkomandi. Ég er fæddur og uppalinn í Reykjanesbæ. Hef verið virkur í félagsmálum, stjórnmálum og samfélagsmálum. Nú nýverið hef ég lagt mitt af mörkum við að þrýsta á stjórnvöld að ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautar. Fyrirséð er að helstu verk næsta kjörtímabils eru uppbygging innviða og aukin velferð. Grunnurinn að því er aukin verðmætasköpun. Suðurkjördæmi er kjördæmi tækifæranna. Flest allir ferðamennirnir hefja dvöld sína, nota mikinn tíma ferðar sinnar og ljúka dvöl sinni í kjördæminu. Kjördæmið er ríkt af auðlyndum; hreint vatn, jarðvarmi, vatnsafl, hrein náttúra og margt fleira. Sjávarútvegurinn stendur föstum fótum í kjördæminu sem skapar mikil verðmæti. Svona mætti lengi telja. Ég tel hins vegar að enn séu mikil tækifæri á að gera betur.
Bættar samgöngur
Nú er svo komið að ráðast verður í margar brýnar framkvæmdir í samgöngumálum. Málaflokkurinn hefur verið fjársveltur frá efnahagshruni og hefur fjárfestingaþörfin byggst upp síðustu ár. Tvær megin ástæður fyrir þörfinni eru aukning ferðamanna og bætta samgöngur fyrir íbúa kjördæmisins til að auka atvinnu- og búsetumöguleika fólks. Brýnustu verkefni kjördæmisins eru tvöföldun
4. VF.IS Í NÝJUM FÖTUM
hneigðar, leggja niður mannanafnanefndar og margt fleira. Þetta eru allt mál sem við verðum að ræða af mikilli alvöru. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið leiðandi í að auka frelsi einstaklingsins og nauðsynlegt er að svo verði áfram.
Lækkun skatta
Það er einlæg skoðun mín að sérhver einstaklingur er betur til þess fallinn að ráðstafa sínum tekjum en ríkissjóður. Ef við Sjálfstæðismenn tölum ekki fyrir skattalækkunum þá mun enginn flokkur gera það. Halda þarf áfram lækkun tekjuskatts til að auka ráðstöfunnartekjur fólks. Afnema á allar undanþágur í virðisaukaskattkerfinu og fækka þrepunum í eitt. Með því myndi virðisaukaskattkerfið vera gegnsærra, skilvirkara og undanskotum fækka.
Ísak Ernir Kristinsson
Suðurlandsvegar, útrýma verður einbyggðum brúm á þvóðveginu, fjölga ferðum Herjólfs sem og ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautar. Þessi upptalning er alls ekki tæmandi því fjárfestingaþörfin er gríðarleg.
Ungt fólk vill frelsi
Margir af minni kynslóð vilja aukið frelsi. Frelsismálin leynast víða, stór sem smá. Aðskilnaður ríkis og kirkju, staðgöngumæðrun í velgjörðaskyni, frjáls sala áfengis, blóðgjöf út frá heilsufarsjónarmiðum í stað kyn-
TÖLVUNNI
Öflugur liðsmaður
Ég er reiðubúinn að axla þá ábyrgð sem fylgir því setjast á Alþingi sem fulltrú Sjálfstæðisflokksins. Ég er ekki reyndur í stjórnmálum en það sem ég kem með að borðinu er vinnusemi, dugnaður og gríðarlegur áhugi á að gera gott samfélag enn betra. Einnig er ég öflugur liðsmaður sem á gott með að vinna með fólki og eiga góð samskipti við fólk. Þess vegna gef ég kost á mér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
SNJALLSÍMANUM
SPJALDTÖLVUNNI
FYLGSTU MEÐ Í...
ÍSAK ERNIR KRISTINSSON
SÆTI
Ég er reiðubúinn að axla þá ábyrgð sem fylgir því að setjast á Alþingi sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Ég er ekki reyndur í stjórnmálum en það sem ég kem með að borðinu er vinnusemi, dugnaður og gríðarlegur áhugi á að ge gera gott samfélag enn betra.
@isakkristins
fimmtudagur 8. september 2016
19
VÍKURFRÉTTIR
FRAMKVÆMDIR VIÐ NORÐUR-SUÐUR FLUGBRAUT Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Mikið hefur verið rætt um flugumferð yfir byggð á Suðurnesjunum nú í sumar en hún hefur aukist vegna framkvæmda sem nú standa yfir á norður-suður flugbrautinni á Keflavíkurflug velli og að sjálfsögðu aukinnar umferðar um Keflavíkurflugvöll. Að öllu jöfnu fer um 60% flugumferðar um norður-suður flugbrautina m.a. vegna ríkjandi vindátta og eins til þess að lágmarka flug yfir byggð. Vegna framkvæmdanna hefur nánast öll flugumferðin í sumar farið um austur-vestur flugbrautina. Reynt hefur verið eftir fremsta megni að beina flugvélum í flugtak til vesturs og út á sjó til þess að minnka f lug yfir byggð. Ef flugbrautin er í notkun í þá átt að flugtak er til vesturs þá þarf að nota brautina í þá stefnu sem gerir það að verkum að Þröstur Söring vélar koma inn til framkvæmdastjóri lendingar úr austri. rekstrarsviðs KeflaAuk þess er stefna víkurflugvallar. flugtaka og lendinga einnig háð veðuraðstæðum, en ávallt er reynt að taka á loft á móti vindi. Af þessum sökum má alltaf búast við einhverri flugumferð yfir byggðina á meðan á þessum framkvæmdum stendur. Flugvélögin fljúga líka eftir ákveðnum ferlum til þess að lágmarka sem mest hljóðsporið og hefur þessum ferlum verið breytt í gegnum árin eftir því sem byggð þróast og færist nær flugvellinum.
Staða framkvæmdanna
Framkvæmdirnar eru nokkrum dögum á eftir áætlun en verið er að vinna upp þær tafir sem orðið hafa og enn stendur til að opna norðursuður f lugbrautina um miðjan október. Nú hefur 1.600 metra kafli brautarinnar verið opnaður og munu minnstu vélarnar því geta notað þá braut og á næstunni mun opinn hluti brautarinnar verða 2.000 metrar. Við það mun tækifærunum til að nota norður-suður brautina fjölga. Næsta sumar verður austur-vestur brautin malbikuð og norður-suður brautin verður þá nær eingöngu í notkun. Það mun hafa þau áhrif að draga mun verulega úr flugumferð yfir byggð allt næsta sumar.
Mælingar hafnar
Isavia hefur hafið hljóðmælingar í kringum flugvöllinn og verða þær notaðar til þess að kortleggja hljóðmengun frá flugumferð og kanna hvaða áhrif breytingar á flugferlum hafa. Í fyllingu tímans verða svo settir
upp fleiri mælar og niðurstöður þeirra birtar á vef Isavia svo íbúar og Isavia geti fylgst vel með og haft nákvæmari upplýsingar um það hvaða flughreyfingar það eru sem valda ónæðinu hverju sinni. Ef allt gengur að óskum verður þessi vefur kominn upp fyrri hluta árs 2017.
Brautir malbikaðar á 15-20 ára fresti – viðhaldsáætlun verður endurskoðuð
Þær aðstæður sem við stöndum frammi fyrir núna eru sérstakar. Nú er verið að vinna við þá flugbraut sem er að jafnaði mest notuð, m.a. til þess að minnka ónæði af flugumferð, og því er það óhjákvæmilegt að meiri umferð fari yfir byggð í næsta nágrenni vallarins. Malbikunarframkvæmdir sem þessar þarf að ráðast í á um 15-20 ára fresti, þó hafa komið upp hugmyndir um næst þegar ráðist verður í framkvæmdirnar verði viðhaldsáætlun flugbrauta breytt á þann veg að ekki þurfi að loka þeim yfir jafnlangt tímabíl og nú er. Auk malbiksframkvæmda er unnið að öðrum viðhaldsverkefnum við brautirnar til þess að takmarka líkt og kostur er lokun þeirra síðar meir, m.a. er verið að skipta um flugleiðsögubúnað og endurnýja brautarljósakerfi. Okkur hjá Isavia þykir auðvitað mjög leitt að ónæðið aukist svona og við höfum leitað allra leiða til þess að lágmarka það eins og kostur er. Flugfélögin hafa sömuleiðis gert sitt besta í að lágmarka umhverfisáhrif af vélum þeirra, hvort sem það er til eldsneytissparnaðar eða minnkunar á hljóðmengun. Rétt er að ítreka að Isavia vill umfram allt að sú starfsemi sem fer fram á Keflavíkurflugvelli sé í sem mestri og bestri sátt við nærsamfélagið. Þær aðstæður sem uppi eru núna hvað snertir viðhaldsþörf, sem og aukningu á flugumferð á tímum sem hún var mjög takmörkuð, bjóða upp á nýjan raunveruleika fyrir okkur öll. Því miður þá sáum við og notendur flugvallarins ekki fyrir alla áhrifaþætti og vanmátum aðra en við munum að afloknu þessu sumri standa uppi með öruggari og betri flugvöll sem mun þjóna betur okkar gestum sem og landsmönnum öllum og það viljum við gera í góðri sátt við íbúa nærsveitarfélagana. Það er enn á ný tilefni til þess að biðjast afsökunar á því hve mikil áhrifin hafa verið af núverandi framkvæmdum og við tökum það auðvitað til okkar sem við höfum heyrt að íbúar hefðu viljað meiri og tíðari upplýsingar um framkvæmdina, áhrifin og framvinduna. Á sama tíma er full ástæða til þess að líta björtum augum fram á við til þess tíma þegar betrumbætt og öruggari flugbraut verður opnuð.
VIÐ ÞURFUM DRÍFANDI FÓLK Í VINNU ÝMIS STÖRF Í BOÐI Fjölpóstur
Bréfberar
Fast hlutastarf við frágang og dreifingu á fjölpósti í Reykjanesbæ.
Óskum eftir einstaklingum í Garði, Sandgerði og Vogum til að sinna bréfburði 2–3 tíma alla virka daga (lengur á fimmtudögum).
Útkeyrsla Óskum eftir ratvísum einstaklingum til að keyra út póstsendingar á heimili í Reykjanesbæ, Garði, Sandgerði og Vogum. Vinnutími er 16.30–21.30 alla virka daga.
Nánari upplýsingar veitir Anna Guðmundsdóttir í síma 825 1140 eða í annam@postur.is
Hægt er að sækja um störfin á umsóknarvef Póstsins: umsokn.postur.is Umsóknarfrestur til 19. september.
20
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 8. september 2016
Árangur – reynsla – framtíðarsýn
Forgangsmál að bæta kjör eldra fólks
Alþingiskosningar eru í nánd og okkar sjálfstæðismanna bíður það verk að stilla upp öflugum framboðslista hér í Suðurkjördæmi. Ég hef verið oddviti sjálfstæðismanna og leitt flokkinn í kjördæminu í gegnum tvennar kosningar þar sem Suðurkjördæmi hefur orðið eitt sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu. Ég óska nú eftir umboði sjálfstæðismanna til þess að gera það í þriðja sinn og nýta reynslu mína í þágu okkar góða kjördæmis. Á kjörtímabilinu hefur orðið alger viðsnúningur í íslensku efnahags- og atvinnulífi fyrir tilstuðlan skýrrar stefnu ríkisstjórnarinnar. Hallarekstri hefur verið snúið í afgang, skuldasöfnun stöðvuð og skattar lækkaðir. Almenningur nýtur þess í auknum kaupmætti og bættum hag. Fyrir síðustu kosningar lögðum við áherslu á það að verðmætasköpun væri forsenda velferðar og að við þyrftum að koma atvinnulífinu í gang. Hér á Suðurnesjum var þetta eitt helsta áherslumálið og mikil óþreyja eftir úrbótum. Það er því einkar ánægjulegt fyrir mig sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra að leggja mín verk og ríkisstjórnarinnar í dóm kjósenda. Á kjörtímabilinu hefur regluverk verið einfaldað, nýsköpun og frumkvöðlastarf tekið stakkaskiptum, fjárfestingar í atvinnulífinu aukist og atvinnuleysi nánast verið útrýmt. Um 17.000 störf hafa orðið til í samfélaginu frá upphafi kjörtímabilsins sem þýðir að á milli 450-500 störf hafa orðið til á hverjum mánuði frá því að þessi ríkisstjórn tók við. Atvinnuleysi á Suðurnesjum er nú komið undir landsmeðaltal í fyrsta sinn síðan að herinn fór. Þegar ríkisstjórnin tók við voru hér 830 manns á atvinnuleysisskrá en eru nú undir 200. Ég hef skrifað undir fimm fjárfestingasamninga á kjörtímabilinu, þar af eru fjórir hér á Suðurnesjum sem þegar hafa skapað fleiri hundruð fjölbreytt störf í örþörungarækt, gagnaverum, fiskeldi og kísiliðnaði. Við upphaf kjörtímabilsins voru um 3000 manns sem höfðu atvinnu af starfsemi flugstöðvarinnar - nú eru þeir 6500. Fyrir þessar kosningar er enginn að tala um atvinnumál - nú eru komin önnur verkefni sem brýnni þörf er á að leysa. Í öllum þeim málaflokkum sem mér hefur verið falin ábyrgð á hafa verið sett fram skýr markmið til framtíðar sem unnið er eftir í góðu samstarfi
Ég vil gera það að forgangsatriði að við bætum kjör þeirra sem lakast standa í hópi eldra fólks og öryrkja. Með nýjum lögum kenndum við Pétur Blöndal um almannatryggingar eru tekin skref sem koma til móts við þær kröfur sem settar hafa verið fram en baráttan verður alltaf að standa vörð um þá sem lökust hafa kjörin. Með Péturslögunum verður mikil réttarbót með einföldun kerfisins, minni skerðingum vegna tekjutenginga en tryggja þarf að hóflegar fjármagnstekjur innan hóflegra marka skerði ekki bætur. Nýsamþykkt frumvarp um greiðsluþátttöku í heilbrigðiskerfinu þar sem gert er ráð fyrir því að frá og með næstu árumótum greiði enginn meira en sem nemur 60 þúsund krónum á ári í læknisog sjúkrakostnað er heljarstökk inn í framtíðina í bættum hag allra. Þetta er gríðarlega stórt mál ekki síst eldra fólk og öryrkja sem mest nýta sér þjónustu heilbrigðiskerfisins. Næsta skref er að taka lyfjakostnaðinn inn í greiðsluþátttökuna. Sjúkrarýmum er að fjölga á Suðurlandi en það er ákall eftir uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Þorlákshöfn, breytingu á tvíbýli í einbýli og stækkun á Höfn svo ærin verkefni eru til að berjast fyrir.
og besta fagfólksins sem nú er jafnvel að láta af störfum uppúr sextugu sem er auðvitað sóun á hæfileikum, reynslu og þekkingu sem þjóðfélagið þarf svo mikið á að halda.
Heilsa og heilbrigði
Ég berst fyrir kjörum eldra fólks og öryrkja
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra
við atvinnulífið. Ég er þakklát fyrir þá hvatningu og umsagnir sem ég hef fengið frá foyrstumönnum í ferðaþjónustu, iðnaði, orkugeiranum, nýsköpun, tónlistar- og kvikmyndaiðnaði sem ég hef unnið þétt með á kjörtímabilinu. Það er ánægjulegt að mörg þessara verkefna hafa verið unnin í Suðurkjördæmi. Nú byggjum við ofan á þennan árangur, verðmætasköpunin er nefnilega forsenda velferðar. Á næsta kjörtímabili þarf að sækja fram á þeim sviðum sem við erum öll sammála um að þurfi að efla - við munum leggja alla áherslu á uppbyggingu innviða í grunnstoðum samfélagsins, svo sem samgöngumálum, heilbrigðis- og menntamálum. Þar eru forgangsverkefni okkar Suðurnesjamanna að ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautarinnar og bæta öryggi á þeim hættulegu gatnamótum sem við mörg hver förum um á hverjum degi. Tökum höndum saman sjálfstæðismenn og sýnum hvers við erum megnug og tryggjum góða þátttöku í prókjörinu á laugardag - ég óska eftir stuðningi ykkar í 1. sæti.
Ég er þó áhugasamastur um tækninýjungar í heimaþjónustu sem við verðum að innleiða á næstu árum og svo stóra áhugamálið mitt um „Heilsu og heilbrigði“ eldri borgara sem ég tekið þátt í að kynna með Janusi Guðlaugssyni. Þar eru ekki aðeins tækifæri fyrir eldra fólkið heldur er það ljóst að með því að leggja meiri rækt við heilsu og heilbrigði fólks sparast gríðarlegar upphæðir í heilbrigðiskerfinu og lífsgæði þess mun aukast til muna sem er stærsti vinningurinn.
Aukum atvinnuþátttöku
Ég vil kanna hvort það gæti aukið atvinnuþátttöku eldra fólks að lækka tryggingagjaldið á 67 ára og eldri sem gerði þann aldurshóp eftirsóknarverðari af atvinnulífinu. Á sama hátt þarf þá að skoða að ávinningur þeirra af atvinnuþátttöku skili sér í launaumslagið og skerðingar éti ekki upp ávinninginn. Það blasir við á næstu árum skortur á hverskonar fagmenntuðu fólki og ég velti fyrir mér hvort breytingar eins og ég bendi á gætu lengt atvinnuþátttöku reyndasta
Ásmundur Friðriksson alþingismaður.
Sannarlega horfir margt til betri vegar, tugmilljarða raunaukning á kjörtímabilinu til velferðamála er staðreynd, kaupmáttur eykst, tollar lækka, vörugjöldin fallin út, verðlag er stöðugt og svigrúm ríkisins til að gera betur vex. Það svigrúm verður að nota til að bæta hag eldra fólks og öryrkja, það er verkefnið sem ég mun beita mér fyrir að krafti fái ég stuðning til áframhaldandi setu á Alþingi. Þá er mikilvægt að bætur verði sömu og lágmarkslaun ekki síðar en 2018 eða 300 þúsund krónur, einfalda greiðslukerfið, auka þátttöku í lyfjakostnaði, gleraugna – og heyrnatækjakostnaði og auka framboð á ódýru leiguhúsnæði. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið brjóstvörn þessa fólks og það reiðir sig á að forysta flokksins bæti kjör þess. Ég mun standa vörð um hagsmuni eldra fólks sem á skilið þakklæti frá okkur fyrir lífsstarfið sem er undirstaða velmegunar þjóðarinnar í dag og ég mun vinna að því að skapa almenna hagsæld og ánægju í daglegu lífi eldra fólks og öryrkja.
fimmtudagur 8. september 2016
21
VÍKURFRÉTTIR
Ég treysti Ragnheiði Elínu Stjórnstöðvar ferðamála Ragnheiður Elín Árnaer dæmi um verkefni sem dóttir, iðnaðar- og viðRagnheiður hefur komið skiptaráðherra, er framað sem iðnaðar- og viðsýnn og góður leiðtogi. skiptaráðherra. En StjórnHún hefur í störfum stöðin er vettvangur þar sínum sem þingmaður og sem fulltrúar hins opinráðherra unnið af heilb era og greinarinnar indum að viðamiklum og vinna saman. mikilvægum málefnum Ragnheiður er öflugur og er ferðaþjónustan sá stjórnmálamaður og góð málaflokkur sem hefur fyrirmynd fyrir konur sem verið hvað mest áberandi hafa hug á að hasla sér völl á undanförnum miss- Magnea Guðmundsdóttir erum. bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- á vettvangi stjórnmálanna. Hún þekkir það að vera Vöxtur ferðaþjónustunnar flokksins í Reykjanesbæ með storminn í fangið, sem í dag er stærsta atbýr yfir þrautseigju og vinnugrein þjóðarinnar gefst ekki upp þó að á móti hefur haft mikil og jákvæð áhrif í kjördæminu okkar. Eins og við blási. Hún hefur leitt lista Sjálfstæðisþekkjum þá eru nokkrir af okkar vin- flokksins í Suðurkjördæmi í gegnum sælustu áfangastöðum erlendra ferða- tvær kosningar og er kjördæmið eitt manna sem sækja Ísland heim stað- sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins á settir í okkar fallega kjördæmi auk landsvísu. Keflavíkurflugvallar. Ný og spennandi störf hafa orðið til og atvinnuleysi Ég treysti Ragnheiði Elínu til að leiða áfram þingflokk Sjálfstæðisflokksins í heyrir nú sögunni til. Miklum vexti fylgja bæði áskoranir og Suðurkjördæmi og mun setja Ragntækifæri – ekki hvað síst fyrir atvinnu- heiði í fyrsta sæti í prófkjörinu sem fer grein sem á marga snertifleti. Stofnun fram þann 10. september.
VF.IS
Ragnheiður Elín - öflug forystukona úr Reykjanesbæ Næstkomandi laugardag, þann 10. september, fer fram prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Síðustu tvö kjörtímabil hefur Ragnheiður Elín Árnadóttir úr Reykjanesbæ, leitt listann farsællega og sækist nú eftir því að gera það áfram. Ragnheiður Elín hefur sýnt það að hún er öflugur forystumaður og frá því að hún tók við sem leiðtogi flokksins í kjördæminu hafa henni verið falin ábyrgðamikil störf fyrir hans hönd, fyrst sem þingflokksformaður og síðar sem ráðherra, en Ragnheiður er fyrsti ráðherrann sem kemur úr Reykjanesbæ. Hún er nú þegar orðin ein mesta forystukonan í sögu Sjálfstæðisflokksins, fyrst kvenna til að verða ráðherra fyrir landsbyggðakjördæmi og eina konan í sögu flokksins sem hefur leitt framboðslista oftar en einu sinni í þingkosningum. Það var mikil gæfa fyrir okkur íbúa Reykjanesbæjar, og Suðurnesja allra, að hún skyldi taka við sem
Starfsgreinakynning fyrir grunnskólanemendur
ráðherra atvinnumála við upphaf kjörtímabilsins, því hér var ástandið í atvinnumálum það langversta á landinu og úrlausn þeirra það sem kallað var hæst eftir fyrir síðustu kosningar. Nú er staðan sú að atvinnuleysið er í sögulegu lágmarki, komið undir landsmeðaltal í fyrsta skipti í fjölda ára, og fjölbreytt störf hafa orðið til á þessum rúmlega þremur árum. Umhverfi atvinnulífsins hefur tekið stakkaskiptum og enn og aftur sést að það skiptir máli að hafa í forystu fólk sem lætur verkin tala. Þannig forystumaður er Ragnheiður Elín. Mætum öll og styðjum við okkar konu nú á laugardaginn í fyrsta sætið. Það skiptir máli. Björk Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri Jón Guðlaugsson, slökkviliðsstjóri Aron Ingi Valtýsson, formaður Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ Páll Orri Pálsson, varaformaður Heimis
FYLGSTU MEÐ Í... TÖLVUNNI
SNJALLSÍMANUM
SPJALDTÖLVUNNI
Í NÝJUM FÖTUM
■■Starfsgreinakynning fyrir grunnskólanemendur á Suðurnesjum hefur verið haldin reglulega frá árinu 2012. Markmið kynningarinnar er að efla starfsfræðslu og menntun grunnskólanemenda. Hún er einnig mikilvægur þáttur í því að auka starfsvitund og skerpa á framtíðarsýn ungs fólks. Kynningunni er sérstaklega beint að eldri nemendum grunnskólanna, meðal annars vegna þess að hlutfall þeirra 10. bekkinga sem halda áfram námi að loknum grunnskóla er lægra á Suðurnesjum en annars staðar á landinu. Á kynninguna koma þó einnig nemendahópar úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Í ár er kynningin hluti af Sóknaráætlun Suðurnesja 20152019 og haldin af Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum sem fékk Þekkingarsetur Suðurnesja til að halda utan um verkefnið. Kynningin hefur tekist vel síðustu ár og skipuleggjendur hennar hafa fundið fyrir ánægju meðal skólanna sem taka þátt og þeirra sem taka að sér að kynna störf sín. Sérstaklega ber að þakka þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem tekið hafa þátt í kynningunni en sömu aðilar hafa gert það ár eftir ár, jafnvel þó að þetta sé allt unnið í sjálfboðavinnu. Án þessarar miklu velvildar atvinnulífsins á svæðinu væri ómögulegt að halda kynningu sem þessa. Í ár verður starfsgreinakynningin haldin þriðjudaginn 11. október frá kl. 9 - 12 fyrir nemendur 8. og 10. bekkjar og stendur nú yfir leit að þátttakendum. Markmiðið er að á kynningunni verði að finna að minnsta kosti 100 ólíkar starfsgreinar af öllu tagi. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt og kynna sína starfsgrein mega endilega senda póst á netfangið thekkingarsetur@thekkingarsetur.is eða hringja í síma 423-7555.
AFMÆLISÚTSALA ÁRA 1956 - 2016
Bjóðum í sannkallaða útsöluveislu í tilefni 60 ára afmælis Húsasmiðjunnar
ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR Flísar 20-40% afsláttur Handverkfæri 20- 30% afsláttur Verkfæratöskur 20-50% afsláttur Stanley verkfæri 20% afsláttur Black & Decker rafmagnsverkfæri 25% afsláttur Hitachi rafmagnsverkfæri 20% afsláttur DeWalt rafmagnsverkfæri 20% afsláttur Álstigar og -tröppur 20% afsláttur Garðverkfæri 30% afsláttur Ryksugur 20% afsláttur Plastkassar 30% afsláttur Þvottasnúrur 25% afsláttur
Stanley loftpressur 25% afsláttur Málning 20% afsláttur Vegg- og loftaþiljur 20% afsláttur Örbylgjuofnar 20% afsláttur Búsáhöld 25-30% afsláttur Valdar innihurðir frá Jeld Wen 20% afsláttur Nilfisk háþrýstidælur og ryksugur 20% afsláttur Henrad miðstöðvarofnar 20% afsláttur Valdar vörur á lækkuðu verði: Frystikistur • Parket Blöndunartæki • Vaskar.
R ERIKSU JÁLF VELJIÐ 3 STK.
SÍ AÐEIN GILDIR NI N JU MIÐ HÚSAS BÆ S E N REYKJA
9 919 .797
... og margt fleira!
Byggjum á betra verði
*Gildir ekki af tilboðum og „Lægsta lága verði Húsasmiðjunnar“. Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Vöruúrval getur verið misjafnt milli verslanna.
22
VÍKURFRÉTTIR
KRISTJÁN ÓLI NÍELS SIGMUNDSSON GEFUR KOST Á SÉR Í 3. - 4. SÆTI Í PRÓFKJÖRI FYRIR SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN Í SUÐURKJÖRDÆMI. STENDUR FYRIR SAMGÖNGUMÁL // HEILBRIGÐISMÁL // ALDRAÐA OG ÖRYRKJA Landsbyggðina þarf að efla meira fjármagn þarf að fara í landsbyggðina, ef landsbyggðin gleymist þá leggst landsbyggðin af sem ég get ekki leyft að gerast
Okkar ástkæri sambýlismaður, faðir, tengdafaðir og afi
Elis Kristjánsson,
Hringbraut 72, Reykjanesbæ, Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 3. september sl. Útförin fer fram í Keflavíkurkirkju 15. september kl. 13:00. Hafdís Helgadóttir, Sigurbergur Elisson, Jón Þór Elfarsson, Sveinbjörg Júlía Símonardóttir, Hafþór Karlsson, barnabörn.
GLUGGAR Í KOKKABÓK
KLOPP
●●Nánast allt gengið upp hjá Grindvíkingum sem leika í efstu deild að ári Eftir fjögurra ára útlegð í 1. deild náðu Grindvíkingar loks að komast í röð þeirra bestu í fótboltanum með 1-0 sigri á Fjarðabyggð á laugardag. Óli Stefán Flóventsson, einn dáðasti sonur Grindavíkur tók við liðinu síðasta haust og fór með það beinustu leið upp um deild. Liðið er að mestu skipað uppöldum heimamönnum sem ýmist hafa haldið tryggð við liðið eða eru komnir aftur á heimaslóðir. Ef skoðuð er afrekaskrá Grindvíkinga á þessu tímabili þá rekur maður augun fyrst í markatöluna. Markahlutfallið er 31 mark í plús hjá liðinu sem hefur skorað allra liða mest í sumar, eða 46 talsins. Þeir gulu og bláu eru taplausir á heimavelli þar sem þeir hafa unnið sjö leiki og gert þrjú jafntefli. Liðið hefur tapað tveimur leikjum í allt sumar en framundan eru tveir erfiðir leikir á Akureyri gegn toppliði KA og Þórsurum en í lokaumferðinni mæta Framarar til Grindavíkur. Þjálfarinn Óli Stefán á aðeins þrjár vikur eftir af samningi sínum en hann vonast til þess að halda áfram með liðið. Þó er ekkert byrjað að ræða þau mál að hans sögn. Óli Stefán kom til starfa með fimm ára áætlun. Hann tók við Grindavíkurliðinu síðasta haust og hugsaði sér að koma þeim upp um deild á næstu tveimur eða þremur árum. Á fimm ára planinu er svo að koma Grindvíkingum í eitt af efstu sex sætunum í úrvalsdeild. „Það er á áætlun og gaman að ná því eins fljótt og hægt var,“ segir Óli hógvær en hann telur tilkomu
Íris Ósk Guðlaugsdóttir, Sólveig Óskarsdóttir,
Ástkær faðir okkar,tengdarfaðir,afi og langafi,
John Earl Kort Hill,
fv.rannsóknarlögreglumaður,
fimmtudagur 8. september 2016
Viðeigandi: Hér skála þjálfararnir Janko og Óli Stefán í Pepsi eftir að hafa komið Grindavík aftur í deild þeirra bestu.
Milan Stefan Jankovic í þjálfarateymið afar mikilvæga. Þeirra leikstílar ná vel saman enda lék Óli undir stjórn Janko í mörg ár og þekkjast þeir vel.
Landsbyggðar stemning í klefanum
Grindvíkingar misstu fyrirliðann Óskar Pétursson fyrir tímabilið eins sem hinn efnilegi Daníel Leó Grétarsson hélt í atvinnumennsku. Heimamennirnir Alexander Veigar og Gunnar Þorsteinsson komu þó heim fyrir tímabilið og hafa verið lykilmenn í liðinu í sumar, án þess að lasta aðra leikmenn. „Þeir hafa báðir komið mér á óvart. Þannig er Alex mun betri varnarmaður en ég hélt og Gunnar er miklu betri sóknarmaður en ég hélt að hann væri. Þannig að þeirra „veik-
leikar“ eru mun sterkari en maður þorði að vona,“ segir Óli og hlær við. Ómögulegt væri að telja upp alla þá leikmenn sem hafa blómstrað í sumar í svo stuttri grein en inn á milli leynast hógværar hetjur. „Björn Bryde hefur verið stórkostlegur í sumar en menn hafa varla tekið eftir honum. Hann er að mínu viti einn af albestu hafsentum landsins. Hann er einn af þessum leikmönnum sem vigta mjög mikið í þessu þó svo að þeir fái ekki kredit fyrir,“ segir Óli Stefán. Lykilatriði í árangri sem þessum er andrúmsloft og samheldni í leikmannahópnum. „Klefinn hefur verið alveg einstakur. Oft er talað um landsbyggðar stemningu í klefanum og hún er sterk í Grindavík.“
lést föstudaginn 2. septenber á Landspítalanum Fossvogi. Utförin fer fram Í Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 16. septenber kl. 13.00. Jónsvein Joensen, Guðný Hafdís Hill, Sigrún Erla Hill, Laufey Svala Hill, barnabörn og barnabarnabörn.
Mary Joensen, Ævar Örn Jónsson, Hans Ingi Þorvaldsson,
HEIÐARLEIKI - FAGMENNSKA - METNAÐUR
SJÓNVARP
SELUR ALLT
Við höfum opnað nýja starfsstöð að Hafnargötu 91 (við hlið Íslandsbanka)
V Í K U R F R É T TA
NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ
RB
Þórarinn Kópsson
Löggiltur fasteignasali Sími: 615-3343
RB
Páll Þorbjörnsson Aðstoðarmaður Sími: 698-6655
RB
Ólafur Kristjánsson Aðstoðarmaður Sími: 786-1414
GR
Þorbjörn Pálsson
Löggiltur fasteignasali Sími: 898-1233
GR
Dagbjartur Willardsson Aðstoðarmaður Sími: 861-7507
WWW.VF.IS/VEFTV
SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!
RB ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALA SUÐURNESJA Hafnargata 91 - Reykjanesbær - sími 560-5515 sudurnes@alltfasteignir.is
GR ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALAN Í GRINDAVÍK Víkurbraut 46 - Grindavík - sími 426-8890 - grindavik@alltfasteignir.is
fimmtudagur 8. september 2016
Sækja talsvert í þýsku fræðin
Talsvert hefur verið rætt um markaskorun Grindvíkinga í sumar og hvað veldur, enda eru Grindvíkingar nokkuð duglegir að deila mörkum sín á milli en 13 leikmenn hafa komist á blað hjá þeim í sumar. „Hugmyndafræði Janko gengur út á það að halda bolta innan liðsins. Svo kem ég með mikla ákefð bæði í sóknar- og varnarleik. Við erum oft að vinna boltann framarlega og þá er andstæðingurinn úr jafnvægi.“ Þar sækir Óli dálítið í smiðju þýska þjálfarans Jörgen Klopp sem þekktur er fyrir að láta lið sín pressa hátt á vellinum. „Við vinnum ofboðslega mikið með það og köllum það gagnpressu. Ég er mikill aðdáandi Klopp og einnig þjálfara Leverkusen þannig að ég fylgist mikið með þýska boltanum og innleiði til okkar, hef meira gaman af honum en þeim enska,“ enda er hann gallharður aðdáandi þýska liðsins Dortmund.
Fóru á Ljósanótt í Grindavíkurgöllunum
Grindvíkingar gerðu sér glaðan dag eftir leik og hentu í gamaldags partý í gula húsinu. Þar dvöldu þeir fram að miðnætti eftir leikinn gegn Fjarðabyggð sem tryggði sæti í efstu deild. „Eftir það fóru menn að týnast á Ljósanótt held ég. Sumir hverjir í Grindavíkurgöllum, en þeir skiluðu sér allir til baka þannig að það hefur bara gengið vel,“ segir þjálfarinn léttur.
Björn Bryde hefur verið stórkostlegur í sumar en menn hafa varla tekið eftir honum
23
VÍKURFRÉTTIR
Víðismenn færa sig upp um deild ●●Leika í 2. deild næsta sumar Víðismenn fögnuðu 80 ára afmæli félagsins með glæsibrag þegar þeir tryggðu sér sæti í 2. deild með 3-1 sigri á Þrótturum á heimavelli sínum í liðinni viku. Víðir er nú tólf stigum á undan liði Kára sem situr í 3. sæti deildarinnar en Víðismenn eru í 2. sæti, fimm stigum á eftir Tindastólsmönnum. Staðan var 1-1 í hálfleik þar sem Milan Tasic skoraði fyrir Víðismenn og Kristinn Aron Hjartarson fyrir gestina frá Vogum. Aleksandar Stojkovic sá svo um að klára dæmið
SMÁAUGLÝSINGAR Til leigu Til leigu u.b.b. 45 fm stúdíóíbúð í Sandgerði. Laus strax. Upplýsingar í síma 893-2974. 50 fm íbúðaskúr til leigu fyrir aðila er getur lagt til mánaðar vinnu við að standsetja hann. Áhugasamir hafi samband með tölvupósti á runarhart@simnet.is
Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja Skyggnilýsingarfundur Miðlarnir Guðrún K. Ívarsdóttir og Dolores Fowler verða með opinn fund mánudaginn 12. sept. kl. 20:30 í húsi félagsins að Víkurbraut 13 í Keflavík. Húsið opnar kl. 20:00. Aðgangseyrir er kr. 2500,Allir velkomnir.
fyrir Víðismenn í síðari hálfleik með tveimur góðum mörkum. „Það er svona sem við fögnum afmæli. Við mætum fyrstir og förum síðastir. Maður er að eldast og ég sagði einhvern tímann að ég myndi ekki hætta fyrr en Víðir færi upp um deild. Þetta hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir mig, þetta er það sem mitt líf snýst um og er hluti af minni fjölskyldu,“ sagði sigurreifur fyrirliðinn Björn Bergmann Vilhjálmsson í leikslok.
Verið velkomin
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Takk fyrir frábærar móttökur á Ljósanótt! Base Hotel er fullkominn staður til að slaka á og hlaða batteríin, hvort sem þú ert að koma, fara eða millilenda. Við erum við hliðina á Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Verið velkomin á Base Hotel.
· Happy Hour alla daga — bjórinn á 599 kr. · Skemmtun fyrir alla fjölskylduna · Veitingar á vægu verði
Valhallarbraut 756-757 | Reykjanesbæ | basehotel.is
Mundi
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001
Standa þeir uppi í vitanum og telja á Garðskaga?
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
Síðsumarverkin Furukrossviður
9 -12-15-18mm þykkur Gæðavara. Gott verð
3 x 3KW brennarar, grillflötur 2520 cm2, 9KW
Reynir tekur við viðurkenningunni frá Sigrúnu Árnadóttur, bæjarstjóra í Sandgerði. Mynd af vefnum Sandgerdi.is
■■Reyni Sveinssyni var veitt sérstök viðurkenning fyrir framlag sitt til atvinnu-, ferða- og menningarmála í Sandgerði við hátíðlega athöfn í Safnaðarheimilinu þar í bæ á dögunum. Reyni þarf vart að kynna fyrir þeim sem til Sandgerðis þekkja því svo nátengt er nafn hans Sandgerði í hugum fólks. Við athöfnina var Reyni afhent blóm og viðurkenningarskjal og færðar sérstakar þakkir fyrir framlag sitt til samfélagsins. Viðurkenninguna veitti Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri fyrir hönd atvinnu-, ferða- og menningarráðs Sandgerðisbæjar. Af því tilefni sagði hún að Reynir væri kvikur og ötull frumkvöðull sem aldrei hafi legið á liði sínu við að bæta og efla hag samfélagsins. „Hann hefur gegnt ótal trúnaðarstörfum fyrir bæjarfélagið, látið að sér kveða og verið virkur í félagasamtökum í bænum, verið formaður sóknarnefndar um árabil og átt frumkvæði að nýjungum í ferða- og menningarmálum. Hann hefur byggt upp dýrmætar heimildir um sögu og þróun samfélagsins með miklum fjölda ljósmynda sem hann hefur tekið á liðnum árum og áratugum.“ Þá sagði Sigrún ómetanlegt fyrir hvert samfélag að eiga einstaklinga eins og Reyni sem haft hefur mikil og jákvæð áhrif á samfélag sitt og verið einn helsti kynningarfulltrúi þess.
Gúmmí gatamottur 61x91cm 12mm kr. 2.190 100 x 100cm x 12mm kr. 3.390 100 x 150cm x 22mm Kr. 6.990 60 x 80cm x22mm kr. 2.690 100 x 150cm x 16mm kr. 5.790
Made by Lavor
ODEN EÐAL OLÍA á palla. Hágæða Silikonalkyd efni. 3 l. Landora tréolía, 3 lítrar Deka Hrað 5 kg
1.890
2.690
Bio Kleen pallahreinsir 1 líter
4.390
895 5 lítrar kr. 3.295
Weber Rep 980 5kg
1.650
DEKA SÍLAN vatnsfæla 5 lítrar
Breidd: 1 metri Verð pr. lengdarmeter
Truper 10574
6.590
1.890
1.895
1 líter kr.
1.790
Hlúaajárn Buf PGH316
1.890
Weber Milligróf múrblanda 25 kg
Strákústur 30cm breiður
1.890
590
8.590 Hvítt = fyrir matvælaiðnað – lok fáanleg 12 lítrar
35 lítrar
365
50 lítrar
3.990
2.995
50 lítrar
995
4.190
20 lítrar
625
2.790 15 metra rafmagnssnúra
5.290
3.190
pr stk
Bíla & gluggaþvotta kústur, gegn um rennandi 116>180cm, hraðtengi með lokun
Steypugljái á stéttina – þessi sem endist
75 lítrar
1.290 Mikið úrval Margar stærðir Gott verð
795
Tia Garðverkfæri
Öflugar hjólbörur, 90 lítra
3.190
1.790
MIKIÐ ÚRVAL
2.390
25 stk. 110 lítra ruslapokar Einnig 200lítra 10 stk. kr. 795 (65my)
20 lítrar
■■Nokkur umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi Lögreglunnar á Suðurnesjum að undanförnu. Tveir bílar skullu saman við gatnamót Vatnsleysustrandarvegar og Stóru – Vatnsleysuvegar. Engin umferðarmerki eru við umrædd gatnamót og töldu báðir bílstjórarnir sig vera í rétti. Bílarnir skemmdust mikið og var dráttarbíll fenginn á vettvang til fjarlægja þá. Ökumennirnir, sem voru einir í bílunum, hlutu ekki alvarleg meiðsl. Þá hafnaði bíll á varnarvír á milli akreina eftir að ökumaður hafði misst stjórn á honum á hringtorgi hjá Fitjum. Önnur umferðaróhöpp voru minni háttar og engin slys urðu á fólki.
130 Max bar 420min Litrar Fylgihlutir: Burstar, sápubrúsi & Turbóstútur.
DOMAX byggingarvinklar. Mikið úrval
35 lítrar
Báðir ökumenn töldu sig í rétti
14.990
43.900
Sandgerðisbær veitti Reyni Sveinssyni viðurkenningu ●●Fyrir framlag til ● atvinnu-, ferða- og menningarmála
Lavor One Plus 130 háþrýstidæla
Kailber KG-1503 Gasgrill
Garðkarfa 25L
1.075 Proflex Nitril vinnuhanskar
Reykjavík
Kletthálsi 7
Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær
Fuglavík 18
Opið virka daga kl. 8-18
395
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Neytendur athugið! Múrbúðin selur allar vörur sínar á lágmarksverði fyrir alla, alltaf. Gerið verð- og gæðasamanburð!
VF.IS Í NÝJUM FÖTUM
TÖLVUNNI
FYLGSTU MEÐ Í...
SNJALLSÍMANUM
SPJALDTÖLVUNNI