• fimmtudagurinn 15. september 2016 • 36. tölublað • 37. árgangur
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Jarðborinn Þór er notaður í djúpborunarverkefninu á Reykjanesi.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Bora niður á 5000 metra dýpi ●●Merkum áfanga náð og eiginleg djúpborun að hefjast á Reykjanesi
Ragnheiður Elín var í eldlínunni í Vogum þar sem hún tók skóflustungu að nýrri verksmiðju í síðustu viku. Nú er ljóst að hún mun hverfa af pólitíska sviðinu. VF-mynd/hilmarbragi.
Samfélagið og stjórnmálin betri með bæði kyn við borðið ●●segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra eftir að hafa orðið undir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. l Eyjamaður vann toppslaginn og ljóst að Suðurnesjamenn munu ekki eiga möguleika á ráðherra úr flokknum í næstu ríkisstjórn. „Ég hef meiri áhyggjur af flokknum mínum og stjórnmálunum sem slíkum í ljósi niðurstöðu prófkjörsins, ekki vegna „ásýndar listans“ eins og einhverjir hafa nefnt, heldur vegna þess að ég er sannfærð um að stjórnmálin, eins og samfélagið allt, séu betri og árangursríkari þegar bæði kynin eiga sæti við borðið. Ég vil þakka stuðningsmönnum mínum fyrir frábæra baráttu, fyrir gleðina, hvatninguna og takmarkalausa traustið sem mér hefur verið sýnt. Ég læt þessu hér með lokið og kveð stjórnmálin að loknu þessu kjörtímabili. Það er auðvitað leiðinlegt
að tapa en þannig er nú bara pólitíkin og fyrir mig persónulega er þetta einfaldlega nýtt upphaf, framtíðin er óskrifað blað uppfull af tækifærum,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra eftir að hafa lent í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna um síðustu helgi. Miðað við þessi úrslit er ljóst að Sjálfstæðismenn muni ekki eiga ráðherra af Suðurnesjum á næsta kjörtímabili fari svo að þeir komist í meirihluta í nýrri ríkisstjórn. Í kjölfar úrslitanna tilkynnti Ragnheiður brotthvarf sitt
úr stjórnmálum. Hún segist vissulega muna sakna umhverfisins og stjórnmálanna en nú taki eitthvað nýtt og spennandi við. Eyjamaðurinn Páll Magnússon var sigurvegari prófkjörsins. Hann fékk 1771 atkvæði í 1. sæti, 45% atkvæða en rúmlega 4 þúsund manns tóku þátt. Ragnheiður fékk 1021 atkvæði í 1. sæti eða 26%, Ásmundur Friðriksson fékk 895 atkvæði í 1. sæti. Ásmundur endaði í 2. sæti, Vilhjálmur Árnason varð þriðji, Ragnheiður fjórða og Unnur Brá Konráðsdóttir í því fimmta.
„Prófkjör hafa góða kosti sem jafnframt eru stóru gallarnir. Það er aðeins einn sem getur sigrað og fáir komist í örugg sæti á listum. Þeir sem eftir sitja sleikja sárin. Grimmdin getur farið út fyrir öll mörk og vinabönd eru slitin en vonandi gróa þau með tímanum,“ segir Ásmundur Friðriksson, þingmaður á Facebook-síðu sinni eftir prófkjörið. Árni Sigfússon, fyrrverandi bæjarstjóri í Reykjanesbæ sagði að forystuatkvæðin hafi tvístrast á Suðurnesjum og Páll Magnússon hafi hlotið mjög sterka kosningu.
■■Íslenska djúpborunarverkefnið hefur nú náð merkum áfanga þar sem búið er að bora og fóðra djúpborunarholu niður á 3.000 metra dýpi. Næsti áfangi hófst formlega í vikunni þegar boranir hófust að nýju en stefnt er að því að bora niður á allt að 5.000 metra dýpi. „Það er vandasamt verk að bora svona langt niður á háhitasvæði og ná að fóðra holuna og því mikið gleðiefni að það hafi tekist. Nú má í raun segja að hin eiginlega djúpborun sé að hefast á Reykjanesi,“ segir Ásgeir Margeirsson forstjóri HS Orku. Djúpborunarholan á Reykjanesi verður dýpsta háhitahola sem boruð hefur verið á Íslandi og jafnvel í heiminum öllum. Um er að ræða samstarfsverkefni um djúpborun á Reykjanesi sem leitt er af HS Orku og unnið í samstarfi við norska olíufélagið Statoil og önnur fyrirtæki innan íslenska djúpborunarverkefnisins (IDDP). „Þetta tilraunaverkefni verður mikið lærdómsferli fyrir okkur sem stöndum að þessu og við hjá HS Orku erum stolt af því að leiða þetta verkefni með öflugum samstarfsfélögum,“ segir Ásgeir. Íslenska djúpborunarverkefnið fékk styrk frá rannsóknaráætlun Evrópusambandsins uppá 1,3 milljarða króna. Nánar má lesa um verkefnið á vef Víkurfrétta, vf.is.
300.000 hrognkelsi flutt til Skotlands ■■Rétt um 300.000 lifandi hrognkelsaseiði verða flutt með skipi frá Grindavík til Skotlands í vikunni. Í Skotlandi fá hrognkelsin það hlutverk að éta laxalús. Það er fyrirtækið Stofnfiskur sem ræktar hrognkelsin í þeim tilgangi að selja til fyrirtækja í laxeldi. Hrognkelsin eru mjög áhugasöm um laxalúsina og virka vel í baráttunni við hana. Hjá Stofnfiski fengust þær upplýsingar að vöntun væri á hrognkelsaseiðum. Þá er það jafnframt tilraun að senda seiðin með þessum hætti til Skotlands en skipið sem er notað, Alison Kay LK 57, er frá Hjaltlandseyjum. Stofnfiskur er m.a. með starfsemi við Hafnir og Voga.
Alison Kay LK 57 í höfn í Grindavík.
VF-mynd: Hilmar Bragi
■■Íbúafjöldi Sveitarfélagsins Voga er nú 1.174. Í upphafi árs voru þeir 1.148, og hefur því fjölgað um 26, eða um 2,3%. Svolitlar sveiflur hafa verið innan ársins, þannig að talsverð hreyfing virðist vera á fólki, segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum í vikulegu fréttabréfi í Vogum. „Sé litið lengra aftur í tímann má sjá að í upphafi árs 2015 var fjöldi íbúa 1.102, okkur hefur því fjölgað um 6,5% á tæpum tveimur árum. Íbúafjöldinn reis hæst árið 2008, þá bjuggu hér 1.231 manns. Samsetning íbúafjöldans er smátt og smátt að breytast, þótt við séum enn með hátt hlutfall barna á leikskóla- og grunnskólaaldri. Þessi aldurshópur er nú 23% íbúanna, en var 26% íbúanna árið 2008,“ segir Ásgeir bæjarstjóri.
FÍTON / SÍA
Vogamönnum fjölgað um 6,5% á tæpum tveimur árum einföld reiknivél á ebox.is
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
2
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 15. september 2016
Aldargamall Grindavíkur vegur skemmdur
●●Minjastofnun Íslands sendir Vegagerðinni alvarlegar athugasemdir
Minjastofnun Íslands hefur gert alvarlegar athugasemdir við skemmdir sem hafa verið unnar á gamla Grindavíkurveginum við gatnamót Norðurljósavegar. Minjastofnun hefur sent Vegagerðinni athugasemdirnar og sendi afrit af bréfinu til frístunda- og menningarnefndar Grindavíkurbæjar. Þar var bréfið tekið fyrir á fundi nefndarinnar í síðustu viku. Minjastofnun gerir athugasemdir við þær skemmdir sem unnar hafa verið á gamla Grindavíkurveginum í þeim framkvæmdum sem nú er unnið að á gatnamótum Grindavíkurvegar og Norðurljósavegar. Gamli Grindavíkurvegurinn var lagður á árunum 1914-1918. Þær framkvæmdir sem nú standa yfir hafa raskað gamla Grindavíkurveginum við gatnamótin. Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkurbæjar tekur undir þær alvarlegu athugasemdir sem Minjastofnun gerir við þær skemmdir sem unnar hafa verið á gamla Grindavíkurveginum.
Frá framkvæmdasvæðinu á gatnamótum Grindavíkurvegar og Norðurljósavegar þar sem gamli Grindavíkurvegurinn hefur orðið fyrir skemmdum á framkvæmdasvæðinu. VF-mynd: Hilmar Bragi
Þorsteinn sveitarstjóri Skútustaðahrepps
Aðalfundur Smábátafélags Reykjaness verður haldinn í Salthúsinu í Grindavík laugardaginn 1. október kl. 17:00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og kosning stjórnar.
„Það er eitthvað mikið um að vera við Ungó“ ●●fjölmennt lögreglulið við Hafnargötu
■■„Það er eitthvað mikið um að vera í Ungó. Það eru þrír löggubílar og fullt af löggum þar inni,“ var símtal sem barst til fréttavaktar Víkurfrétta á laugardagskvöldið. Lögreglan varðist frétta þar til sólarhring síðar að upplýst var um ástæður þess að fjölmennt lið mætti í Ungó. Lögregluliðið var að byrgja sig upp af sælgæti úr nammibarnum, eins og sést á meðfylgjandi mynd sem lögreglan birti á fésbókarsíðu sinni.
Auglýsingasíminn er 421 0001
Stjórnin.
HEIÐARLEIKI - FAGMENNSKA - METNAÐUR
RB Þórarinn Kópsson
Löggiltur fasteignasali Sími: 615-3343
RB Páll Þorbjörnsson Aðstoðarmaður Sími: 698-6655
SELUR ALLT
RB Ólafur Kristjánsson Aðstoðarmaður Sími: 786-1414
■■Þorsteinn Gunnarsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skútustaðahrepps. Alls bárust 23 umsóknir um starfið. Ráðningin var gerð í samstarfi við Capacent sem hafði umsjón með úrvinnslu umsókna. Þorsteinn er 50 ára sviðsstjóri og hefur í tæp 9 ár starfað hjá Grindavíkurbæ, fyrst sem upplýsinga- og þróunarfulltrúi og svo sem sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og hefur því víðtæka reynslu innan stjórnsýslunnar. Hann starfaði um árabil í fjölmiðlum, m.a. á Stöð 2. Hann er með meistarapróf í verkefnisstjórnun (MPM) og diplóma í opinberri stjórnsýslu og lærði fjölmiðlafræði í Svíþjóð á sínum tíma. Þorsteinn hefur setið í fjölmörgum nefndum og ráðum, m.a. í stjórn Ferðamálasamtaka Reykjaness og Reykjanes Geopark. Eiginkona hans er Rósa Signý Baldursdóttir grunnskólakennari og eiga þau þrjú börn.
GR Þorbjörn Pálsson
Löggiltur fasteignasali Sími: 898-1233
GR Dagbjartur Willardsson Aðstoðarmaður Sími: 861-7507
RB ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALA SUÐURNESJA Hafnargata 91 - Reykjanesbær - sími 560-5515 sudurnes@alltfasteignir.is
GR ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALAN Í GRINDAVÍK Víkurbraut 46 - Grindavík - sími 426-8890 - grindavik@alltfasteignir.is
Á vettvangi þegar slökkvistarfi var að ljúka. VF-myndir: Hilmar Bragi
Eldur í nýbyggingu í Innri Njarðvík ■■Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var kallað út síðasta föstudag að Lómatjörn í Innri Njarðvík. Þar hafði eldur verið borinn að nýbyggingu í götunni. Þegar slökkvilið og lögregla komu á vettvang loguðu eldar á tveimur stöðum í húsi sem hefur verið í byggingu í mörg ár. Slökkviliðsmenn voru fljótir að ráða niðurlögum eldsins sem hafði verið kveiktur í einangrunarplasti inni í húsinu. Tjón varð ekki mikið en lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins.
MÁLNINGAR-
DAGAR BYKO SUÐURNESJUM 15.-19. SEPTEMBER
ÖLL INNIMÁLNING
20% AFSLÁTTUR
HARRIS PENSILL 25,38,50 eða 75mm. Frá:
FIA LAKKRÚLLA 10cm og bakki.
395
695
kr./stk.
kr.
83072110/14/20/30
84124174
byko.is
Gerðu góð kaup!
FIA RÚLLA 25cm og bakki.
995
kr.
84100160
FIA RÚLLA 25cm og skaft.
1.995
kr.
84100150
markhönnun ehf
HEILSU OG LÍFSSTÍLSBLAÐ NETTÓ 120 SÍÐUR AF FRÓÐLEIK OG FRÁBÆRUM TILBOÐUM
2
A
OFURTILBOÐ Í 11 DAGA!
EITT OFURTILBOÐ Á HVERJUM DEGI Í 11 DAGA. SKOÐAÐU TÖFLUNA HÉR AÐ NEÐAN TIL AÐ SJÁ HVAÐ ER Í BOÐI. HVERT TILBOÐ GILDIR Á TILGREINDUM DEGI EN AÐRA DAGA ERU SÖMU VÖRUR Á ALLT AÐ 25% AFSLÆTTI.
FIMMTUDAGUR 15. SEPT
Tilboð dagsins
40% AFSLÁTTUR
FÖSTUDAGUR 16. SEPT
Tilboð dagsins
LAUGARDAGUR 17. SEPT
Tilboð dagsins
40%
40%
AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR
NATURE CROPS BOLLASÚPA 3 BRAGÐTEGUNDIR VERÐ ÁÐUR: 299 KR/PK KR/PK
40% | 179
SUNNUDAGUR 18. SEPT
Tilboð dagsins
40% AFSLÁTTUR
GIMME ÞARASNAKK M. SJÁVARSALTI VERÐ ÁÐUR: 798 KR/PK KR/PK
BERRY COMPANY SAFI M. GOJIBERJUM - 330 ML VERÐ ÁÐUR: 179 KR/STK KR/STK
40% | 107
MÁNUDAGUR 19. SEPT
Tilboð dagsins
+
EÐA
Tilboð dagsins
40%
40% | 107
NOW ADAM EÐA EVE MULTIVÍTAMÍN - 90 STK NOW OMEGA-3, 1.000 MG FYLGIR FRÍTT MEÐ KR/PK
3.299
+ KAUPAUKI
FRÍTT MEÐ KAUPAUKI
40% | 479
ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPT
ÄNGLAMARK SMOOTHIE MIX VERÐ ÁÐUR: 179 KR/PK KR/PK
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPT Tilboð dagsins
FIMMTUDAGUR 22. SEPT
Tilboð dagsins
33%
33%
AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR
VIT HIT LEAN & GREEN - 500 ML VERÐ ÁÐUR: 269 KR/PK KR/PK
40% | 161
FÖSTUDAGUR 23. SEPT
Tilboð dagsins
35% AFSLÁTTUR
HIMNESK HOLLUSTA RÍSKÖKUR 3 TEGUNDIR VERÐ ÁÐUR: 299 KR/PK KR/PK
HIMNESK HOLLUSTA GRÓFAR HAFRAFLÖGUR - 1 KG VERÐ ÁÐUR: 529 KR/PK KR/PK
33% | 200
33% | 354
LAUGARDAGUR 24. SEPT
Tilboð dagsins
SUNNUDAGUR 25. SEPT
Tilboð dagsins
33% AFSLÁTTUR
HIMNESK HOLLUSTA GRÓFT HNETUSMJÖR - 250 G VERÐ ÁÐUR: 359 KR/PK KR/PK
35% | 241
ISOLA MÖNDLUMJÓLK - 1 L VERÐ ÁÐUR: 479 KR/STK KR/STK
33% | 321
40% AFSLÁTTUR
NAKD NIBBLES - 40 G TOOTY FRUITY VERÐ ÁÐUR: 179 KR/PK KR/PK
40% | 107
Tilboðin gilda 15. – 25. september 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
2
TÓ
ALLT AÐ
25% HEILSU & LÍFSSTÍLSDAGAR 15. - 25. SEPTEMBER AFSLÁTTUR AF HEILSU- & LÍFSSTÍLSVÖRUM
-60% TAKMARKAÐ
MAGN
25% AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR AF VÍTAMÍNUM OG BÆTIEFNUM
KJÚKLINGALUNDIR - 700 G VERÐ ÁÐUR: 1.689 KR/PK
676 KR/PK
15% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM ÄNGLAMARK VÖRUM
25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM FRÁ HIMNESKRI HOLLUSTU
KYNNINGAR Í VERSLUNUM NETTÓ Í DAG 15. SEPTEMBER:
25% AFSLÁTTUR
25% AFSLÁTTUR
15% AFSLÁTTUR
NETTÓ GRANDA - KL. 16-19 GEOSILICA NETTÓ KROSSMÓA - KL. 14-18 WHOLE EARTH HNETUSMJÖR OG AMISA BÓGHVEITI NETTÓ KROSSMÓA - KL. 20-21:30 HEILSUKVÖLD NETTÓ MEÐ ÁSDÍSI GRASALÆKNI NETTÓ MJÓDD - KL. 16-18 RAGGA NAGLI NETTÓ MJÓDD - KL. 15-18 BAI DRYKKIR OG GIMME SNAKK
www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss
6
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 15. september 2016
RITSTJÓRNARPISTILL Páll Ketilsson
Samstöðuleysi? Ragnheiður Elín Árnadóttir hefur ákveðið að kveðja stjórnmálin eftir að hafa lotið í lægra haldi í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Hún segist sannfærð um að stjórnmálin, eins og samfélagið allt, séu betri og árangursríkari þegar bæði kynin eiga sæti við borðið en hún og Unnur Brá Konráðsdóttir, tvær af ellefu frambjóðendum enduðu í 4. og 5. sæti prófkjörsins. Ragnheiður hefur verið ráðherra iðnaðar- og viðskipta í núverandi ríkisstjórn en hún er fyrsti ráðherra Suðurnesjamanna í þessum stóra stjórnmálaflokki. Nú er ljóst að Suðurnesjamenn eiga ekki möguleika á ráðherra í næstu ríkisstjórn úr Sjálfstæðisflokknum, nái flokkurinn því að komast þangað. Svona er pólitíkin og mikil umræða hefur spunnist í framhaldi af prófkjörinu um kynjamál sem og það hvort prófkjör sé rétt aðferð í uppröðun á lista. Sumir telja aðferðina góða þar sem þátttakendur leggja flestir mikla vinnu í undirbúning og öflun atkvæða. Aðrir telja að aðferðin sé þannig að mjög fáir gangi sáttir frá borði. Ásmundur Friðriksson, sem endaði í 2. sæti í prófkjörinu, gagnrýndi t.d. stuðningsmenn Páls Magnússonar harkalega tveimur dögum fyrir prófkjör fyrir óheiðarlega kosningabaráttu en sagði svo að því loknu. „Prófkjör hafa góða kosti sem jafnframt eru stóru gallarnir. Það er aðeins einn sem getur sigrað og fáir komist í örugg sæti á listum. Þeir sem eftir sitja sleikja sárin. Grimmdin getur farið út fyrir öll mörk og vinabönd eru slitin en vonandi gróa þau með tímanum,“ sagði Ásmundur á Facebook síðu sinni eftir prófkjörið. Það er ekki ólíklegt að það muni taka smá tíma að stilla saman strengi bæði á Suðurnesjum sem og í flokknum. Alla vega er ljóst að samstöðuleysi skilaði því að Eyjamaður hirti forystusætið. „Eyjamenn sýndu samstöðu en Suðurnesjamenn tvístruðust,“ sagði Árni Sigfússon, fyrrverandi bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Hér skal ekki lagður dómur í þessa umræðu því hún hefur vissulega margar hliðar en oft hefur verið talað um að samstöðu vanti iðulega innan raða Suðurnesjamanna í ýmsum málum. Það hafi komið skýrt fram í þessu prófkjöri. Það hlýtur að vera umhugsunarefni.
SJÓNVARP V Í K U R F R É T TA
NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ
WWW.VF.IS/VEFTV
SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!
MEIRAPRÓFSBÍLSTJÓRI DOOR2DOOR SHUTTLE SERVICE óskar eftir bílstjóra í fullt starf. Unnið er á vöktum 2-2-3 eða eftir samkomulagi. Starfið felur í sér akstur með flugfarþega á milli Hótela í Reykjanesbæ og Flugstöð Leifs Eiríkssonar ásamt ferðum í Bláa Lónið, Reykjavík og dagsferðum um landið. Meirapróf D er skilyrði. Nánari upplýsingar i síma 852-9509 eða info@shuttle.is
Frá framkvæmdum við norður-suður flugbrautina. VF-myndir: Hilmar Bragi
Kynntu flugvallarframkvæmdir fyrir sveitarstjórnarfólki Forsvarsmenn ISAVIA buðu í síðustu viku framkvæmdastjórum sveitarfélaga á Suðurnesjum sem eru á áhrifasvæði flugvallarins í heimsókn þar sem starfsemin og ekki síst framkvæmdir við endurnýjun flugbrauta voru kynntar. Í sumar hefur staðið yfir endurnýjun á norður-suður flugbrautinni, sem hefur af þeim sökum verðið nánast lokuð. Af þeim sökum hefur öll flugumferðin verið um austur-vesturbrautina, en aðflugs- og flugtakslína þeirrar brautar liggur beint yfir Njarðvík og Voga. Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, segir frá fundinum í vikulegu fréttabréfi sínu en íbúar Sveitarfélagsins Voga hafa undanfarnar vikur og mánuði orðið varir við hina miklu flugumferð sem fer um Keflavíkurflugvöll, jafnt á degi sem nóttu.
„Ferðamönnum sem sækja landið heim hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár, og sér ekki enn fyrir endann á þeirri þróun. Sú þróun hefur í för með sér meiri flugumferð eins og gefur að skilja,“ segir Ásgeir. Lokun á norður-suður flugbrautinni í sumar skýrir hveru mikið íbúar í Vogum hafa orðið varir við flugumferðina. Næsta sumar veður austurvestur flugbrautin endurnýjuð, og verður sú braut því lokuð á meðan framkvæmdum stendur. Íbúar í Njarðvík og Vogum verða því lítið varir við flugumferðina næsta sumar en hins vegar verður aðflugslínan yfir Garðsjó og Leiruna og því von á að fólk verði meira vart við flugið þar, sem og í efstu byggðum Keflavíkur.
Ný brautarljós eru m.a. á miðlínu akbrauta en ekki bara á hliðarlínu eins og áður.
Telja innanlandsflug frá alþjóðaflugvelli mikilvægt fyrir ferðaþjónustuna Það skiptir miklu ef ferðamenn geta flogið beint út á land frá millilandaflugvöllum, að mati forsvarsmanna ferðamála í Finnlandi, Noregi og Danmörku. Frá þessu er greint á ferðavefnum Túristi.is. Sá kostur er ekki í boði fyrir fólk á leið til og frá Íslandi þar sem innanlandsflugið er á Reykjavíkurflugvelli. Farþegar sem lenda á Óslóarflugvelli geta flogið þaðan beint til fjölda áfangastaða innanlands í Noregi. Á Turisti. is er haft eftir Stein Ove Rolland, talsmanni ferðamálaráðs Noregs að samgöngur frá flugvöllum séu einkar mikilvægar fyrir íbúa og aðkomufólk í landshlutum þar. Hann segir Óslóarflugvöll klárlega mikilvægustu gáttina fyrir ferðamenn inn í Noreg og að ferðamálayfirvöld vilji að þeir upplifi meira en bara höfuðborgina. „Þeir eiga líka að sjá Bergen og firðina, fara til Stavanger, Þrándheims eða Bodö,
VF.IS Í NÝJUM FÖTUM
Tromsö, Lófóten og svo framvegis. Flugsamgöngurnar á milli Óslóar og þessara staða eru því þýðingarmiklar. Þær binda Noreg og útlandið saman,” segir Stein Ove í viðtali við Túrista. Í sama streng tekur Paavo Virkkunen, framkvæmdastjóri ferðamálaráðs Finnlands í viðtali við Túrista. Fjarlægðir í Finnlandi geta verið miklar og frá stærsta flugvellinum í Helsinki er boðið upp á flug innanlands og utan og segir Paavo það mjög þýðingarmikið fyrir ferðaþjónustuna. Daglega lenda á milli 2.500 og 8.000 erlendir ferðamenn á Keflavíkurvelli og á milli 1.000 og 2.000 Íslendingar. Á Túrista kemur fram að ef skiptiflug frá Keflavíkurflugvelli út á land yrði álíka vinsælt og það er á Óslóarflugvelli myndu á milli 500 til 1.500 farþegar kjósa að fljúga þaðan dag hvern og út á land. TÖLVUNNI
SNJALLSÍMANUM
SPJALDTÖLVUNNI
FYLGSTU MEÐ Í...
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
ð magn Takmarksa kammtur
1kg
Fjórði kar 220.000 po
90g
prótein
498 kr. kg
Danpo Kjúklingur Danskur, heill, frosinn
498
1.279 kr. 900 g
kr. 1 kg
ES Kjúklingabringur Frosnar, 900 g
GOTT VERÐ Í BÓNUS
aðir beinhreins
Roð- og ir að beinhreins
998 kr. kg
998
Norðanfiskur Saltfiskbitar Útvatnaðir, frosnir
Norðanfiskur Þorskbitar Roð- og beinlausir, frosnir
kr. kg
198 kr. stk.
um land allt
Ný uppskera
kr. 500 g
Akursel Gulrætur Lífrænar, 500 g
59
kr. 250 ml
3200 blöð
998 kr. pk
Nicky Salernispappír 16 rúllur í pakka
298 kr. 120 g
Bónus Skinka Silkiskorin
Euro Shopper Ostapizza Frosin, 300 g
Sama verð
398
Eggjahvítur 1 kg
298 kr. 120 g
ES Orkudrykkur 250 ml, 2 teg.
2.698 kr. 270 g
Bónus Reykt Skinka Silkiskorin
Amino Energy Fæðubótarefni 270 g, 8 teg.
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 18. september eða meðan birgðir endast
8
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 15. september 2016 Þessi mynd var tekin á nemendum í hárgreiðslu um árið.
ÆTLAR ÞÚ, AÐ STANDA VÖRÐ UM ÍSLENSKA ÞJÓÐARHAGSMUNI, Í KOMANDI ALÞINGISKOSNINGUM ÞAÐ GERUM VIÐ X-E ÍSLENSKA ÞJÓÐFYLKINGIN. SÍMI 831-1867 GUÐMUNDUR KARL ÞORLEIFSSON.
Íslenska Þjóðfylkingin
ATVINNA FIBRA óskar eftir að ráða starfsmenn til léttra iðnaðarstarfa. Upplýsingar á póstfang regin@fibra.is eða í síma 772 9296.
Minjar og mannlíf Evrópsku menningarminjadagarnir 2016
Tyrkjabyrgin í Eldvörpum
Nánari upplýsingar á www.minjastofnun.is www.europeanheritagedays.com
17. september Viðburðurinn er ókeypis og allir eru velkomnir!
AÐALFUNDUR
Sjálfsbjargar á Suðurnesjum verður haldinn fimmtudaginn 25. september í húsi félagsins á Iðavöllum 9A kl. 16:00. Venjuleg aðalfundarstörf og kaffiveitingar Stjórnin
●●Við stofnun voru nemendur um 250 en eru nú vel yfir 1000 Fjölbrautaskóli Suðurnesja fagnar fjörutíu ára afmæli sínu um þessar mundir en skólinn var fyrst settur 11. september 1976. Þegar hefur verið haldin veisla í skólanum fyrir nemendur og kennara. Þann 24. september næstkomandi verður svo opið hús í skólanum. Á dagskránni þann dag eru tónleikar þar sem fyrrum nemendur skólans koma fram. Að sögn Kristjáns Ásmundssonar, skólameistara skólans, var úr vöndu að ráða við skipulagningu dagskrár enda margt hæfileikaríkt tónlistarfólk sem stundað hefur nám við skólann. Skólinn hefur breyst mikið á þeim fjörutíu árum sem liðin eru frá stofnun hans. Hann varð til við samruna Iðnskóla Suðurnesja (sem áður hét Iðnskóli Keflavíkur), Framhaldsdeildar Gagnfræðaskólans í Keflavík og Öldungadeildar Gagnfræðaskólans í Keflavík. Til að mynda var húsnæðið um þúsund fermetrar í byrjun en er nú um 9000 fermetrar. Í þá daga var kennt á nokkrum stöðum í Keflavík, til dæmis í Holtaskóla, í safnaðarheimili Aðventista og víðar. Í upphafi voru nemendur skólans um 250 en eru nú rúmlega þúsund. Þá eru ótaldir um 130 nemendur í 10. bekkjum grunnskóla á Suðurnesjum sem taka staka áfanga á framhaldsskólastigi og 14 nemendur í fjarnámi í netagerð. Aukið námsframboð með árunum
Jónsvör 5 - Vogum
Minja- og sögufélag Grindavíkur stendur fyrir göngu um Eldvörp þar sem skoðuð verða Tyrkjabyrgin og aðrar merkilegar fornleifar. Tyrkjabyrgin eru allmikil mannvirki sem fundust veturinn 1872 og hafa verið uppi getgátur um tilvist þeirra. Mæting er kl.10 við Geo Hotel í Grindavík.
FAGNA 40 ÁRA AFMÆLI FJÖLBRAUTASKÓLA SUÐURNESJA
Með árunum hefur framboð á námsleiðum verið aukið og geta nemendur FS nú valið á milli rúmlega fjörutíu brauta. Í boði er bæði hefðbundið nám til stúdentsprófs og fjölbreytt starfs- og verknám. Fjölgreinabraut er ein þeirra brauta sem í boði eru til stúdentsprófs og á henni taka nemendur hefðbundin kjarnafög sem eru einnig á hinum brautunum en geta svo valið sér fög tengt því sem þeir hyggjast læra í framtíðinni. Kristján tekur sem dæmi að nemandi sem ætli í háskólaKristján nám í arkitektúr Ásmundsson, geti lagt sérstaka skólameistari FS. áherslu á smíðar og stærðfræði og þannig undirbúið sig sem best. Við starfsbraut stunda um 50 nemendur nám en hún er ætluð nemendum sem þurfa aukna aðstoð við námið og þar er reynt að mæta námslegum þörfum hvers og eins. Langflestir nemendur FS koma af Suðurnesjum, eða um 95 prósent. Kristján segir alltaf hluta nemenda velja sér að fara annað til náms en að þeim hafi fækkað. „Bæði fylgir því kostnaður auk þess sem tími fer í ferðir til Reykjavíkur, búi nemendur hér á Suðurnesjum. Það gerist á hverju hausti að nemendur sem höfðu ætlað sér í nám annað hætta við á síðustu stundu og sækja um hér í FS. Þá er ekki víst að þau geti fengið alla þá áfanga sem þau vilja.“ Þá bendir Kristján á að einhverjir sæki annað í skóla því þar sé bekkjarkerfi. „Svo eru önnur sem hafa orðið fyrir einelti í grunnskóla og vilja þess vegna sækja skóla á öðru svæði. Ástæður þess að sækja annað í nám geta verið fjölmargar.“ Kristján segir kennsluna í FS góða og að nemendur
þurfi ekki þess vegna að sækja annað. Nemendur skólans hafa spjarað sig vel hvort heldur er á vinnumarkaði eða í háskólanámi. „Þetta fer allt eftir því hversu tilbúin og viljug þau eru að læra. Megin reglan er sú að ef nemendur stunda námið vel þá gengur þeim vel. Það eru alltaf einhverjir sem vilja sigla lygnan sjó í gegnum námið og leggja lítið á sig en það er sama sagan alls staðar - það verður að sinna náminu vel til að ljúka því.“
Barátta gegn brotthvarfi eilífðar verkefni
Brotthvarf úr framhaldsskóla er eilífðar verkefni, að sögn Kristjáns. Nýlega var átaki til að sporna við því ýtt úr vör við FS. Tveir sálfræðingar eru þrjá daga í viku í skólanum auk
þess sem starfsmaður var ráðinn til að fylgjast með þeim nemendum sem eru í hvað mestri hættu á að hverfa frá námi. Hann segir mikið framboð af atvinnu á svæðinu toga í nemendur. „Við hvetjum þau alltaf til að ljúka námi því það er erfitt að snúa til baka á fullorðinsaldri enda er fólk þá yfirleitt komið með ýmsar skuldbindingar og hefur stofnað fjölskyldu. Því segjum við að yfirleitt sé best að nýta tímann á meðan ungt fólk getur búið í foreldrahúsum. Þetta verður ekkert léttara síðar.“ Nú er búið að stytta nám til stúdentsprófs í þrjú ár og segir Kristján það vonandi hjálpa gegn skólaleiða því þá sé ekki svo mikið eftir þegar búið er að ljúka tveimur árum en skólaleiðinn mun vera algengastur á þeim tímapunkti.
Ein af hinum alræmdu busavígslum við FS á árum áður.
Þrír fyrrverandi skólameistarar FS: F.v.: Jón Böðvarsson, Hjálmar Árnason og Óli Jón Arnbjörnsson.
Mjög góð kaup á bognu 4K sjónvarpi KU6175
49” 55”
THIS IS TV Sería: 6100 • Tegund: UHD - 4K • Stærð: 49” eða 123cm • Bogið • Upplausn skjás: 3840x2160 (4K) - 8M pixlar • Tegund skjás: LED • PQI: 1400 PQI (Picture Quality Index) 49” KU6175
55” KU6175
Verð: 139.900,-
Verð: 179.900,-
49”
55”
55”
LED • 1920X1080 • 400 PQI • Nýtt Smart viðmót
UHD • 4K • 8 milljón pixlar • 1500 PQI • Nýtt Smart viðmót • Quad-Core örgjörfi
UHD • Curved • 4K • 8 milljón pixlar • 1500 PQI • Nýtt Smart viðmót • Quad-Core örgjörfi
49” K5505 Verð áður: 139.900.Verð nú: 118.900,-
55” KU6405/6475 Verð áður: 239.900.Verð nú: 199.900,-
55” KU6655/6505 Verð áður: 249.900.Verð nú: 209.900,-
FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
Opnunartímar: Virka daga kl. 10-18. Laugardaga kl. 11-14.
HAFNARgötU 23 REYkjANEsbæ · sÍMI 421-1535
Greiðslukjör Vaxtalaust í allt að 12 mánuði
10
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 15. september 2016
Í TÓNLIST
SÍÐAN Í MÓÐURKVIÐI ●●Vinnur að tónlistarsköpun og byggir brýr á milli þjóðfélagshópa í London
Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths úr Keflavík hefur spilað tónlist alla sína tíð og stýrir nú námi í skapandi tónlistarmiðlun við virtan tónlistarháskóla í Bretlandi. Sex ára gömul hóf hún nám við Tónlistarskólann í Keflavík en kveðst þó hafa verið óformlegur nemandi þar síðan í móðurkviði þar sem móðir hennar, Ragnheiður Skúladóttir, kenndi við skólann. Í æsku lærði Sigrún á píanó, fiðlu, básúnu en sérhæfði sig síðar á básúnu. Undanfarin ár hefur hún stýrt meistaranámi við Guildhall tónlistarháskólann í London en skólinn er á lista yfir tíu bestu tónlistarháskóla í heimi og fékk nú í vor þann stimpil frá Higher Education Funding Council að vera alheimsleiðtogi í kennslu. „Fagið sem ég kenni var einn þeirra fimm liða sem gerði skólanum það kleift að ná þessari tilnefningu og ég er afskaplega stolt af því,“ segir Sigrún. Fagið sem hún stýrir er einstakt á heimsvísu og segir Sigrún að sem krakka í Tónlistarskólanum í Keflavík hafi hana aldrei órað fyrir því að starfa í því umhverfi sem hún gerir í dag. Eftir að Sigrún lauk stúdentsprófi á tónlistarbraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja nam hún við blásarakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík. Þegar hún var á öðru ári, árið 1996, sótti hún námskeið sem átti eftir að hafa mikil áhrif en þar kynntist hún eiginmanni sínum, Paul Griffiths. „Hann er einn af kennurunum við Guildhall og kom til Íslands til að kynna námið. Þessa örlagaríku helgi féll ég bæði fyrir honum og faginu,“ segir Sigrún. Saman eiga þau tvö börn, þau Rhys Ragnar 12 ára og Sædísi Rheu 8 ára, og búa í Suð-austur London í blómlegu og grænu hverfi sem heitir Sydenham. Fyrir á Paul þrjár uppkomnar dætur af fyrra hjónabandi.
Skapar tónlist með börnum og unglingum á geðdeildum
Í Guildhall stýrir Sigrún, ásamt bestu vinkonu sinni, Nell Catchpole, meistarakúrs sem heitir Masters in Leadership. Á íslensku kallast fagið skapandi tónlistarmiðlun. Námið tekur tvö ár og er sótt af tónlistarfólki alls staðar að úr heiminum. „Nemendur þurfa að vera mjög sterkt tónlistarfólk til þess að fá inni hjá okkur en þess er ekki krafist að fólk sé menntað í klassískri tónlist. Þar af leiðandi er gífurleg breidd í tónlistarhefðum og menningarheimum sem
fyrirfinnast í nemendahópnum mínum hverju sinni.“ Deildin var stofnuð árið 1989 og var upphaflega ætlað að skoða hvernig hægt væri að brúa bilið á milli klassískra tónlistarnemenda og umheimsins, þar sem klassískur tónlistarheimur á það til að vera eitthvað sem höfðar til ákveðins samfélagshóps en alls ekki til allra. Upphaflega aðferðin fólst aðallega í því að fara með tónlistarnemendur út í samfélagið til þess að flytja klassíska tónlist, en síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar, að sögn Sigrúnar. Stór hluti námsins sem Sigrún stýrir felst í því að kenna þá tækni sem gerir tónlistarfólki kleift að starfa úti í samfélaginu. Þá er aðal markmiðið að brúa bil og efla samskipti á milli þjóðfélagshópa sem og að gera einstaklingum kleift að eiga samskipti við annað fólk á nýjum grundvelli. Nemendur skólans starfa með hinum ýmsu hópum og fólki á öllum aldri svo sem í hefðbundnum grunnskólum, með börnum og fullorðnum með sérþarfir, með innflytjendum, inni á spítölum, á hjúkrunarheimilum og í fangelsum. Þau vinna einnig mikið með fólki úr öðrum listgreinum. „Ég vinn reglulega með hljóðfæraleikurum úr Royal Philharmonic Orchestra inni á
Sigrún Sverrisdóttir-Griffiths býr í London og stýrir námi í skapandi tónlistarmiðlun við Guildhall, einn virtasta tónlistarháskóla í heimi. Stór hluti námsins felst í því að kenna þá tækni sem gerir tónlistarfólki kleift að starfa úti í samfélaginu og að brúa bil og efla samskipti á milli þjóðfélagshópa.
lokuðum geðdeildum fyrir unglinga og börn. Þessi börn eru þau veikustu sem fyrirfinnast í landinu og koma úr óskaplega erfiðum aðstæðum. Flest hafa þau farið í gegnum réttarkerfið sem gerendur og oft fyrir kynferðisglæpi. Þau eiga í miklum erfiðleikum með eðlileg samskipti við annað fólk, en við semjum með þeim lög, bæði texta og laglínur alveg frá grunni og á undraverðum hraða.“ Sigrún segir börnin og unglingana nánast vera fanga í eigin huga en ná að tjá sig í gegnum tónlist, vinna að sameiginlegu markmiði með öðru fólki og standa stolt frammi fyrir hópi fólks og flytja sín eigin sköpunarverk. „Svona jákvæð reynsla hefur gífurleg áhrif á sjálfsmynd þeirra og sjálfstrú og veitir þeim tækifæri til annars konar hegðunar.“
Á leið í hljóðver fyrir David Byrne
Sigrún vinnur einnig að verkefni með heimilislausu fólki í hljómsveitinni the Messengers. Í sveitinni eru 25 manns og er helmingur þeirra nemendur úr Guildhall og hinn helmingurinn fólk sem er að ná sér á strik eftir að hafa verið heimilislaust. Á næstunni er sveitin á leið í hljóðver fyrir útgáfufyrirtækið Luaka Bop sem er í eigu David Byrne úr hljómsveitinni Talking Heads. Þar taka þau upp fjögur ný lög sem verða gefin út á plötu sem verður
Þau eiga í miklum erfiðleikum með eðlileg samskipti við annað fólk, en við semjum með þeim lög, bæði texta og laglínur alveg frá grunni og á undraverðum hraða
Hljómsveitina the Messengers skipa nemendur úr Guildhall og fólk sem er að ná sér á strik eftir að hafa búið á götunni. Hljómsveitin hefur átt góðu gengi að fagna og er á leið í hljóðver að taka upp plötu. Lengst til hægri á myndinni má sjá Sigrúnu að stjórna sveitinni í febrúar síðastliðnum í Broadway Theatre in Barking and Dagenham.
dreift víða um heim. „Hljómsveitin er þrusu góð, þó ég segi sjálf frá, og það minnist enginn á þá staðreynd að helmingur hljómsveitarmeðlima hafi aldrei nokkurn tíma lært tónlist og hafi verið á götunni fyrir ekki svo löngu. Ástæða þess að við erum að fá þetta tækifæri er einfaldlega sú að tónlistin okkar er góð,“ segir Sigrún. Hljómsveitin spilaði eitt laga sinna í útvarpsþætti David Byrne fyrir Pitchfork Radio í júlí síðastliðnum og í júní spiluðu þau með einum af listamönnunum hjá Luaka Bop á aðalsviðinu á Field Day tónlistarhátíðinni í Victoria Park í London. „Þetta er svakalegt ævintýri fyrir okkur öll, sérstaklega fyrir þau okkar sem hafa upplifað það að vita ekki hvar þau geti höfði sínu hallað og fengið sína næstu máltíð.“
Grétu eftir Brexit
Í vor vann Sigrún að verkefni með hópi unglingsstúlkna frá Sómalíu. Hópurinn var frá félagsmiðstöð fyrir sómalskar konur í London og segir Sigrún samstarfið hafa verið einkar lærdómsríkt. „Stúlkurnar eru allar með slæður og í síðum kuflum. Þær eru mjög tignarlegar og mér fannst þær einhvern veginn ósnertanlegar. Í Sómalíu tíðkast ekki að konur komi fram. Þær dansa og syngja í brúðkaupum og þá er það upptalið. Það kom okkur í Guildhall því skemmtilega á óvart þegar þær óskuðu eftir samstarfi við okkur. Því lauk svo með tónleikum og tóku mæður sómölsku stúlknanna virkan þátt í undirbúningnum og kenndu dætrum sínum og okkur dansana og söngvana sem þær syngja í brúðkaupum í Sómalíu.“ Í starfi sínu í Guildhall umgengst Sigrún fólk alls staðar að úr heiminum og því hefur hún fundið mikla breytingu á andrúmsloftinu í Bretlandi eftir að Bretar kusu að ganga úr Evrópusambandinu í júní síðastliðnum. „Nú er eins og fólki, sem hefur haft neikvæðar tilfinningar gagnvart innflytjendum, finnist það hafa fengið leyfi til að láta þær í ljós. Til dæmis á ég vin sem er af þriðju kynslóð innflytjenda og eins breskur og hægt er að verða og hann hefur þrisvar sinnum orðið fyrir áreitni á almannafæri vegna uppruna síns.“ Eitt af meginmarkmiðum námsins sem Sigrún stýrir er að byggja brýr á milli þjóðfélagshópa en með Brexit hefur orðið til afl sem vinnur að því að brjóta þær, að hennar sögn. „Það var grátið á skrifstofunni minni daginn sem niðurstöður kosninganna voru tilkynntar. Það veit enginn hvernig þetta endar svo það eru ógnvekjandi tímar núna. Það var engin áætlun til um að það hvað myndi taka við eftir
kosninguna. Þetta var pólitískur leikur sem gekk of langt.“
Heldur tengslum við tónlistarlífið á Íslandi
Sigrún kemur reglulega til Íslands til að hitta fjölskyldu og vini og líka til að halda námskeið. Undanfarin tíu ár hefur hún haldið námskeið fyrir tónlistarkennara og stjórnendur í ágúst ár hvert. „Þetta er orðin dálítil hefð hjá mér og námskeiðin eru vinsæl. Svo er þetta frábær leið til þess að halda tengingunni við tónlistarstarfið á Íslandi.“ Í desember kennir Sigrún svo alltaf við Listaháskóla Íslands. Í desember í fyrra dvaldi hún á Íslandi í fimm vikur og voru börnin hennar gestanemendur við Holtaskóla í Reykjanesbæ í þrjár vikur og segir Sigrún það hafa verið mjög spennandi lífsreynslu fyrir þau. Sigrún kveðst ekki finna oft fyrir heimþrá, en þó sakna fjölskyldunnar og óska þess að þau byggju nær. „Ég á það sameiginlegt með mömmu minni að sætta mig við það hvernig hlutirnir eru í stað þess að veltast upp úr því hvernig þeir gætu verið. Ég á óskaplega gott samband við mömmu, bræður mína tvo og þeirra fjölskyldur. Mér þykir ólíklegt að samband okkar væri sterkara þó að við byggjum nær. Auðvitað hjálpar internetið og nútíma samskiptatækni gífurlega. Ég er í daglegu sambandi við mömmu í gegnum síma og frétti vanalega af öllu því sem er að gerast á heimaslóðum áður en mamma hefur tækifæri til þess að segja mér frá því, þökk sé Facebook. Stundum þegar mamma ætlar að segja mér frá fæðingu nýs barns í fjölskyldunni get ég sagt henni hverjum barnið líkist, þar sem ég hef þá þegar séð það á Facebook.“ Móðir Sigrúnar er nýfarin á eftirlaun eftir að hafa kennt á píanó í 53 ár, fyrst við Tónlistarskólann í Keflavík og síðar í Reykjanesbæ. Hún spilaði einnig undir hjá nær öllum kórum og einsöngvurum svæðisins og fór Sigrún oft með mömmu sinni í vinnuna. „Stór hluti míns tónlistaruppeldis fór fram á þessum óformlegu nótum og það hjálpar mér í mínu starfi í dag. Ég þarf að geta útsett, raddsett, samið og stjórnað á svakalega miklum hraða og þá eru það aðallega eyrun mín og tilfinning fyrir röddunum sem ég nýti mest.“ Sigrún segist eflaust hafa fengið þessa tilfinningu fyrir röddum og samhljómi þegar hún sat í fanginu á pabba sínum, Sævari Helgasyni, í Karlakór Keflavíkur, frekar en í tónfræðitímum, þó þeir hafi eflaust hjálpað eitthvað líka. dagnyhulda@vf.is
fimmtudagur 15. september 2016
11
VÍKURFRÉTTIR
Vegagerðin að ljúka útboðsgögnum vegna stálþils í Grindavík Vegagerðin mun í þessari viku ljúka við útboðsgögn vegna endurnýjunar á Miðgarði Grindavíkurhafnar. Endurnýja á viðlegukantinn við Miðgarð með því að reka niður nýtt stálþil. Sigurður A. Kristmundsson, hafnarstjóri í Grindavík, sagði í samtali við blaðið að þegar Vegagerðin skili útboðsgögnum til hafnarstjórnar verði farið yfir málið og útboð á verkinu auglýst í framhaldinu. Miðgarður er 200 metra langur og er gert ráð fyrir að endurbæturnar kosti um einn milljarð króna. Ríkið
greiðir 60% kostnaðar þannig að hlutur Grindavíkurhafnar er um 400 milljónir króna. Stálþilið sem á að reka niður er þegar komið til Grindavíkur en stálið var keypt frá Þýskalandi. Sigurður hafnarstjóri vonast til að hægt verði að hefja framkvæmdir á þessu ári en það ráðist þó af því hvernig útboðið fari en eins og kunnugt er þá sitja verktakar ekki auðum höndum í dag og því hætta á að tilboð í verk verði hærri en ásættanlegt sé.
Köfnunarefnis- og súrefnisverksmiðja tilbúin eftir ár ●●stefna að flutningi starfsemi Ísaga í Voga á næstu árum Ragnheiður Elín Árnadóttir tók fyrir helgi fyrstu skóflustunguna að nýrri köfnunarefnis- og súrefnisverksmiðju Ísaga sem rísa mun á næstu mánuðum í Vogum á Vatnsleysuströnd. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan taki til starfa í október á næsta ári. „Fjárfestingin í verksmiðjunni er stór á okkar mælikvarða, um 2,5 miljarðar króna. Það má með sanni segja að um sé að ræða umhverfisvæna starfsemi, því hráefnið er andrúmsloftið og útblásturinn hrein vatnsgufa,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum um framkvæmdina. ÍSAGA ehf. mun hefja framkvæmdir um miðjan september við nýja súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju á iðnaðarsvæði við Vogabraut í Vogum á Vatnsleysuströnd. Áætlaður kostnaður við verksmiðjuna er 2,5 milljarðar króna og mun hún styðja við íslenskan iðnað og framleiðslu sem er ört vaxandi ásamt því að sjá heil-
brigðiskerfinu fyrir hágæða súrefni á öruggan hátt. Verksmiðjan mun framleiða súrefni og köfnunarefni úr andrúmsloftinu. Uppsetning verksmiðjunnar mun fara þannig fram að skilja og tankar koma samsettir á byggingarsvæðið og önnur mannvirki eru úr forunnum einingum. Lóðin verður girt af með mannheldri girðingu, aðgangsstýrðum hliðum og öryggiskerfum til að tryggja öryggi. Gert er ráð fyrir að verksmiðjunni verði fjarstýrt af starfsmönnum ÍSAGA/Linde á sama hátt og gert er í dag í verksmiðjum ÍSAGA að Breiðhöfða og Hæðarenda. Starfsmenn ÍSAGA eru allan sólarhringinn á bakvakt og sjá um eftirlit og viðhald á búnaði. Enginn mengandi úrgangur eða aukaafurðir fylgja framleiðslunni og verður lyktarlaus vatnsgufa eini útblásturinn frá verksmiðjunni. Starfsemin fellur vel að stefnu í aðalskipulagi um iðnaðarsvæði við Vogabraut í
Vogum. Á svæðinu er gildandi deiliskipulag, „Iðnaðarsvæði við Vogabraut“. ÍSAGA ehf. var stofnað árið 1919 og er í eigu Linde Group sem er stærsta gasfyrirtæki heims með starfsemi í yfir 100 löndum. ÍSAGA ehf. hefur aðsetur að Breiðhöfða í Reykjavík í dag. Þar eru súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðja fyrirtækisins, áfyllingarstöð, skrifstofa, verslun o.fl. Hjá ÍSAGA ehf. starfa um 28 manns og er fyrirtækið með 7 afgreiðslustaðir víðsvegar um landið. Núverandi verksmiðja ÍSAGA í Reykjavík vinnur 800 m3/klst. af súrefni og köfnunarefni en ný verksmiðja mun afkasta um 30% meira. Að Hæðarenda í Grímsnesi er ÍSAGA með rekstur á koldíoxíðframleiðslu (CO2)sem er unnið úr jarðhitavatni. Aðrar lofttegundir sem ÍSAGA ehf. selur, eru innfluttar eins og t.d. glaðloft, argon, helíum, acetylen og própan.
Miðgarður Grindavíkurhafnar verður endurnýjaður. Áætlaður kostnaður er um einn milljarður króna. VF-mynd: Hilmar Bragi
SJÓNVARP V Í K U R F R É T TA
NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ WWW.VF.IS/VEFTV
SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!
Subway leitar að hressum og duglegum starfsmanni í næturvinnu á veitingastaðinn sinn að Fitjum í Njarðvík. Viðkomandi þarf að vera eldri en 20 ára, hafa góða þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, vera röskur, stundvís og reglusamur. Við getum einnig bætt við okkur fólki í vaktavinnu. Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn á mannauðsstjóra með helstu upplýsingum: ingibjorg@subway.is Subway is looking for a good and energetic worker to work at the company‘s restaurant in Fitjar, Njarðvík. The applicant needs to be service motivated, polite, punctual and be able to work shifts. Applicant must speak Icelandic or English, Intrested applicants please send an application to the Human resource manager with all necessary information: ingibjorg@subway.is
Subway poszukuje bardzo dobrych i energicznych osob do pracy w Fitjar, Njarðvik. Osoba ubiegajaca sie o prace powinna byc zmotywowana do obslugi klijenta , uprzejma , punktualna oraz gotowa do pracy w systemie zmianowym . Wymagany jezyk islandzki albo jezyk angielski . Zainteresowanych prosze o przeslanie aplikacji ze wszystkimi informacjami do Kierownika Do Spraw Personalnych: ingibjorg@subway.is SUBWAY® er alþjóðleg keðja með yfir 40 þúsund veitingastaði í rúmlega 100 löndum. Stjarnan ehf., einkaleyfishafi Subway á Íslandi, rekur 23 Subway veitingastaði á Íslandi sem staðsettir eru víða um land. Fyrsti veitingastaður Subway á Íslandi var opnaður árið 1994. Markmið Subway um allan heim er að bjóða upp á fjölbreyttan og bragð-góðan skyndibita með hollustu að leiðarljósi. Strangt gæðaeftirlit tryggir að matvæli uppfylla ströngustu skilyrði um ferskleika og gæði.
12
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 15. september 2016
Ætla að brjóta blað í íslenskri byggingasögu ●●Bátasmiður nýtir reynsluna í húsbyggingar. Lögð verður sérstök áhersla vellíðan starfsmanna og hreyfingu á vinnustaðnum. Vilja fá til sín fólk, 45 ára og eldra, sem býr í Vogum Nýsköpunarfyrirtækið Fibra tekur á næstu vikum til starfa í Vogum og mun framleiða einingar til húsbygginga úr steinull og trefjastyrktu plasti. „Við ætlum okkur að brjóta blað í byggingasögu á Íslandi enda allir orðnir hundleiðir á leka og myglu og þeim erfiðleikum sem henni fylgja,“ segir Regin Grímsson, einn frumkvöðlanna að baki Fibru. Með honum standa að fyrirtækinu þau Helga Hinriksdóttir, Andri Thor Gunnarsson og Haraldur Ingvarsson. Þau sigruðu í frumkvöðlakeppninni Toppstöðinni sem sýnd var á RÚV síðasta haust. Regin hefur fengist við smíðar á bátum úr trefjaplasti í fjóra áratugi og ætlar nú að nýta reynslu sína og byggja hús úr því og steinull. Hann spáir því að þróun í húsbyggingum verði með svipuðum hætti og við bátasmíðar. „Þegar ég byrjaði að smíða báta úr trefjaplasti árið 1975 var erfitt að fá efnið samþykkt hjá Siglingastofnun enda þekkti fólk ekkert annað en bátar væru úr tré og stáli. Ég hélt áfram að mæta til Siglingastofnunar með erlend tímarit og sýna þeim. Svo allt í einu skiptu menn um skoðun og þá tók
plastið yfir. Ég spái því að það sama gerist með húsbyggingar og er því mjög spenntur að fara af stað með framleiðsluna,“ segir hann. Húsin sem Fibra framleiðir eru úr einingum úr gler- og koltrefjum, með kjarna úr steinull og eru lokuð á köntum. Gólfin geta verið úr sams konar einingum eða steinsteypt. Að sögn Regins þarf að grafa skurð og húsveggirnir ganga 80 til 100 sentimetra niður í hann. Svo er húsið fest með festingum og sandur látinn næst húsveggjum og grófara efni mokað að. „Ef fólk vill frekar hafa steinsteypta gólfplötu þá eru veggirnir með festingum sem ganga inn í gólfplötuna.“ Regin segir stærsta kostinn við húsin að þau leka ekki né slaga og í þeim myndist ekki mygla líkt og geti gerst þegar hús eru byggð úr steypu eða timbri. Regin segir mun minni mengun fylgja byggingu á trefjaplasthúsum með steinull en steypuhúsum og að mengunin við framleiðsluna sé einn þriðji sé miðað við steypuhús.
Lítið sýningar Fibra hús við Ráðhús Reykjavíkur. Stefnt er að því að kostnaður við húsin verði 20 prósentum lægri en við sambærileg hús. Engir listar eru í kringum glugga heldur er þeir límdir í. Þá eru útidyrahurðir úr sama efni og húsið. Einingarnar eru með svipaða ásýnd og keramikflísar.
Jóhann Smári tekinn við stjórnartaumunum ■■Stjórn Karlakórs Keflavíkur gekk nýlega frá ráðningu nýs kórstjóra, Jóhanns Smára Sævarssonar. Jóhann Smári er kórnum að góðu kunnur en hann hóf sinn söngferil fyrir rúmlega 30 árum með því að syngja með honum. Að námi loknu starfaði Jóhann Smári sem óperusöngvari víða í Evrópu í 25 ár. Jóhann Smári er Suðurnesjamönnum einnig að góðu kunnur fyrir allar þær uppsetningar og sýningar sem hann hefur staðið að einn og sér og ásamt öðrum á liðnum árum. Þá er hann einnig vel metinn sem söngkennari við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Stjórn karlakórsins væntir góðs af samstarfinu við nýja söngstjórann og það er hugur í kórmönnum. Æfingar hefjast nk. mánudag 19. september en kórinn æfir tvisvar í viku á mánudögum og fimmtudögum milli kl. 19:30 og 21:30. Nýir félagar eru að sjálfsögðu velkomnir, segir í tilkynningu frá kórnum.
Vill aðeins ráða fólk á besta aldri
Frumkvöðlarnir í Fibra eru nú að setja upp framleiðsluna í Vogum og ráða til sín iðnverkafólk. Að sögn Regins leggja þau sérstaka áherslu á að fá til sín fólk, 45 ára og eldra, sem býr í Vogum og verða starfsmennirnir fjórir til sex til að byrja með. „Markmiðið er að ráða til okkar góðan blandaðan hóp til framtíðar, bæði konur og karla. Það eru mikil tækifæri fyrir rétta fólkið að taka þátt í uppbyggingunni á þessu stigi málsins.“ Lögð verður sérstök áhersla vellíðan starfsmanna og hreyfingu á vinnustaðnum og fólk hvatt til að koma gangandi eða hjólandi til vinnu. Þá er ætlunin að einu sinni í viku fari hópurinn saman að róa á kajak á vinnutíma. „Hér í höfninni er frábær aðstaða til siglinga og alltaf logn og lágdeyða. Þegar fólk verður svo komið á bragðið getur það fengið kajaka lánaða í sínum frítíma og róið út á sjó til fiskjar.“ Hádegisverðurinn verður klukkustund og segir Regin það mikilvægt svo fólk geti bæði borðað og hvílt sig svo á eftir.
Fólk getur flutt húsin með sér
Regin segir Fibra húsin henta vel fyrir ungt fólk sem er að byrja að búa enda geti það fyrst sett upp lítið þriggja herbergja hús og byggt við þegar fjölskyldan stækkar. Síðar geti fólk selt frá sér viðbótina þegar það vill minnka við sig. Engir burðarveggir eru í húsunum og segir Regin því ekki flókið að breyta herbergjaskipan þegar þau eru stækkuð. „Húsin henta sérstaklega vel á landsbyggðinni þar sem atvinnuöryggi er lítið. Þá getur fólk byggt sér svona hús og flutt með sér ef það missir vinnuna. Hægt er að taka það af byggingarreitinum, loka fyrir öll op setja það á sjóinn og draga það með skipi, en þá verður gólfplatan vitanlega að vera úr trefjaplasti, ekki steypt.“
Regin Grímsson vinnur nú að uppsetningu á framleiðslunni í Vogum ásamt öðrum frumkvöðlum. Á vinnustaðnum verður lögð áhersla á hreyfingu og vellíðan starfsfólks og eru uppi hugmyndir um að fólk sigli saman á kajak einu sinni í viku og gangi eða hjóli í vinnuna. VF-mynd/dagnyhulda
■■Þegar þróunarferli eininganna var á lokastigi leitaði Regin til dr. Ríkharðs Kristjánssonar verkfræðings hjá Verkfræðistofunni Eflu og bar hugmyndina undir hann. Ríkharður segir enga ástæðu til halda áfram að byggja hús á sama hátt og alltaf hafi verið gert. „Svo kemur Regin og segir það sem ég hef oft sagt þegar ég hef haldið fyrirlestra um alla gallana í íslenskum húsum, þau hafa alltaf verið byggð á rangan hátt. Ég var því lengi búinn að bíða eftir manni eins og Regin með ferskar hugmyndir um breytingar,“ segir Ríkharður. Ríkharður vann í rannsóknarhóp sem útrýmdi alkaliskemmdum í
steyptum húsum á íslandi árið 1978 og byggði upp blómlega deild í fyrirtæki sínu sem veitti viðhaldsráðgjöf. „Ég hef stýrt viðgerðum á næstum öllum stórbyggingum Íslands. Var fimm ár að þétta Seðlabanka Íslands og lét rífa þök af 50 húsum fyrir austan vegna myglu.“ Nú vinnur hann með áhugamannahópi að því að finna út hversu alvarlegt mygluvandamálið hér á landi er. Ríkharður kveðst eiginlega vera orðinn leiður á öllu þessu leka-, slaga- og mygluveseni og hafa beðið lengi eftir nýrri hugsun og fylgist því spenntur með framvindu mála í Vogum.
■■Stækkun á Bláa lóninu Lækningalind lauk á dögunum en hún var fyrst tekin í notkun árið 2005. Hluti af lækningalindinni er hótel sem nú hefur hlotið heitið Silica Hótel. Herbergjum þar hefur verið fjölgað úr 15 í 35 auk þess sem eldri herbergi voru endurgerð. Að sögn Magneu Guðmundsdóttur, upplýsingafulltrúa Bláa lónsins, voru breytingar einnig gerðar á sameiginlegum svæðum þar sem áhersla var lögð á að skapa hlýlegt og fallegt umhverfi. „Við stækkun og endurgerð hótelsins var áhersla lögð á að viðhalda tengingu við náttúrulegt umhverfi byggingarinnar sem er umlukin hrauni. Fallegt útsýni er úr öllum herbergjum hótelsins auk þess sem lítil verönd er við öll herbergin,“ segir hún. Hótelið er vel bókað og segir Magnea nálægðina við Bláa Lónið tvímælalaust veita hótelinu sérstöðu en gestir þess hafa aðgang að sér lóni og hefur það fallið að í góðan jarðveg. Flestir gestanna eru almennir ferðamenn auk gesta sem þar njóta meðferðar. „Við fáum mjög jákvæð viðbrögð frá gestum hótelsins sem njóta þess að dvelja í nálægð við Bláa Lónið og margir þeirra nýta sér einnig aðra afþreyingu á Reykjanesi. Stórbrotin náttúra heillar gesti og þá er jákvætt að geta sagt frá því að við erum staðsett í Reykjanes UNESCO Geopark,“ segir Magnea. Vestan við Bláa lónið rís nú nýtt spa upplifunarsvæði og 60 herbergja lúxus hótel. Nýja hótelið er í hluti af stærra verkefni sem felur meðal annars í sér endurhönnun og stækkun Bláa Lónsins. Þeim áfanga lauk í upphafi þessa árs þegar lónið var stækkað úr 5000 fermetrum í 8800 fermetra. Framkvæmdir við lúxus hótelið ganga vel og mun þeim ljúka Gestir Silica Hótels hafa aðgang að sérlóni og hefur það fallið í góðan jarðveg. Nýlega var herbergjum fjölgað úr 15 í á næsta ári.
Hótel lækningalindar Bláa lónsins stækkað
35 auk þess sem eldri herbergi voru endurgerð.
14
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 15. september 2016
Skrifar bók um efnahagsstefnu
Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna ●●Njarðvíkingurinn Hilmar Þór Hilmarsson ● er gestafræðimaður við University of California, Berkeley Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Viðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri skrifaði nýverið undir bókasamning við hið virta útgáfufyrirtæki Routledge Taylor & Francis um útgáfu nýrrar bókar. Bókin mun bera titilinn: Crisis Response and Post Crisis Results in the Nordic and Baltic Countries: Successes, Failures and Lessons Learned. Áætlað er að bókin komi út vorið 2018. Hilmar er nú gestafræðimaður (Visiting scholar) við University of California Berkeley í boði Institute of European Studies og hagfræðideildar UC Berkeley sem er fimmta besta hagfræðideild Bandaríkjanna ásamt deildinni við Stanford University samkvæmt U.S. News and World Report. Hilmar hefur flutt opna fyrirlestra við UC Berkeley um viðbrögð Íslands og Lettlands við kreppunni sem skall á haustið 2008. Í hinni nýju bók mun Hilmar skoða efnahagsaðgerðir Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í kjölfar kreppunnar og þann árangur sem náðst hefur til dagsins í dag. Sérstök áhersla verður lögð á að greina áhrif eignarhalds Norðurlandanna, einkum Svíþjóðar, á bankakerfi Eystrasaltsríkjanna og áhrif þess
á efnahagsstefnu þeirra. Segja má að þeim erlendu bönkum sem starfa í Eystrasaltsríkjunum hafi verið bjargað frá hruni meðal annars með fastgengisstefnu og miklum niðurskurði opinberra útgjalda í Eystrasaltsríkjunum, ekki síst til velferðarmála. Hilmar segist aðspurður rannsóknarverkefnið snúast um viðbrögð Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna við kreppunni sem skall á 2008 og árangur af mismunandi efnahagsstefnum. „Fyrst töldu t.d. ýmsir að fastgengisstefna Eystrasaltsríkjanna og upptaka evrunnar hefði skilað miklum árangri en nú er ljóst að hægt hefur á hagvexti í þessum löndum, atvinnuleysi er enn mikið. Velferðarkerfin sem voru veik fyrir eru varla til lengur vegna mikils niðurskurðar í ríkisfjármálum. Fólksflótti frá Eystrasaltsríkjunum hefur verið mikill, einkum meðal ungs fólks þannig að í kjölfar kreppunnar varð ungt menntað fólk þeirra aðal útflutningsvara. Þetta getur haft slæm áhrif á hagkerfi þeirra til lengri tíma því þetta fólk flytur oft til Evrópulanda með hærri tekjur og hæpið að það snúi aftur til Eystrasaltsríkjanna. Á Íslandi féll gengið og bankarnir hrundu. Ef við skoðum árangur stefn-
unnar á Íslandi er hann mun betri. Mikill hagvöxtur, lítið atvinnuleysi og aukið svigrúm til útgjalda til velferðarmála þó nú sé líka hætta á ofþenslu og rangri forgangsröðun í ríkisfjármálum. Norðurlöndin, einkum Svíar sem eiga bankakerfið í Eystrasaltsríkjunum kröfðust fastgengisstefnu þar 2008 til þess að bjarga sínum bönkum. Nú erum við að sjá að þetta hefur haft slæm áhrif á efnahag Eystrasaltsríkjanna. Svíar og Finnar lentu sjálfir í bankakreppu árin 1992-3. Þeir felldu gengið líkt og Ísland 2008 og í kjölfarið jókst útflutningur og um leið hagvöxtur og atvinnuleysið minnkaði. Þeir gripu sjálfir ekki til þeirra efnahagsaðgerða 1992-3 sem þeir kröfðust af Eystrasaltsríkjunum 2008. Lærdómurinn sem við getum dregið að þessu er að efnahagsaðlögun með fastgengisstefnu eins og Eystrasaltstríkin reyndu tekur langan tíma og er mjög hæg. Þetta er að verða þeim dýrkeypt. Sum lönd innan Evrusvæðisins eru líka í vandræðum eins og við þekkjum og eiga erfitt með að aðlagast fastgengisstefnu sem felst í sameiginlegum gjaldmiðli,“ segir Hilmar.
HEFUR FLUTT FYRIRLESTRA Í MÖRGUM HÁSKÓLUM Þess má geta að Hilmar starfaði fyrir Alþjóðabankann (e. Word Bank) í fjögur ár í Eystrasaltsríkjunum og hefur á undanfarin 10 ár flutt fyrirlestra og kennt við marga háskóla í þessum löndum, þar á meðal: Tallinn University of Technology og University of Tartu í Eistlandi; Stockholm School of Economics í Riga, University of Latvia og Riga Stradins University í Lettlandi; og Kaunas University of Applied Sciences, Klaipeda University og Vytautas Magnus University Í Litháen. Hilmar hefur einnig flutt fyrirlestra
og kennt við norræna háskóla, þar á meðal: Aalborg University og Copenhagen Business Academy í Danmörku; Haaga-Helia University of Applied Sciences í Finnland og Södertörn University í Svíþjóð. https://www.routledge.com/ http://ies.berkeley.edu/people/visitingscholars/hilmarsson.html http://grad-schools.usnews.rankingsandreviews.com/best-graduateschools/top-humanities-schools/ economics-rankings Hilmar Þór Hilmarsson.
Vinstri græn á Suðurnesjum eiga afmæli Félag VG á Suðurnesjum er 15 ára, var stofnað 2001 og hélt fyrsta opna stjórnmálafundinn 22. nóvember það ár. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur frá upphafi haft sérstöðu í stjórnmálalífi Suðurnesja. Hersetan og brottför Bandaríkjahers Vinstri græn hafa alla tíð barist gegn hersetu landsins og fyrir friðsamari heimi. Það er hverju samfélagi óhollt að vera háð hernaðaruppbyggingu þannig að friðsamt fólk fari að styðja hervæðingu til að verja atvinnu sína eða atvinnurekstur. Bandaríkjaher var stærsti atvinnurekandinn á Suðurnesjum og mörg íslensk fyrirtæki nærðust á honum. VG vildi að Íslendingar tækju frumkvæðið, undirbyggju brottför hersins og vísuðu honum úr landi. Fluttar voru þingsályktanir, haldnar ræður og skrifaðar greinar, en án árangurs. Þegar Bandaríkin ákveða á endanum að kalla herliðið heim var íslenskt þjóðlíf óviðbúið og höggið á Suðurnesjum varð þungt. Vinstri græn héldu herkveðjuhátíð á Ránni í Keflavík fyrir 10 árum. Þar var húsfyllir og mögnuð dagskrá, meðal annars erindi Kristjáns Pálssonar, fyrrverandi bæjarstjóra í Njarðvík og Rúnar Júlíusson söng við eigin gítarundirleik. Atvinnulíf á Suðurnesjum hefur nú jafnað sig eftir herinn. Þar sem áður voru hermenn og vígvélar er nú friðsamt fólk og uppbyggileg starfsemi. Strax haustið 2006 mynduðu Vinstri græn á Suðurnesjum vinnuhóp undir forystu Atla Gíslasonar og gerðu tillögur til að efla atvinnu- og mannlíf á svæðinu, hvernig nýta mætti mannvirkin og hvernig hreinsa skyldi óþverrann. Vinstri græn höfðu lítil tök á að fylgja hugmyndunum eftir, enda ekki með bæjarfulltrúa og ekki í ríkisstjórn fyrr en 2009. Sumt gekk þó eftir undir forystu annarra, svo sem uppbygging háskólasamfélags, en annað ekki, svo sem alþjóðleg björgunar- og friðarmiðstöð. En Vinstri
Ekki verður búið við óbreytt ástand vegarins öllu lengur ●● Bæjarstjórn Garðs ályktar um tvöföldun Reykjanesbrautar. ■■„Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs skorar á Alþingi og samgönguyfirvöld að setja í forgang framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar, frá Fitjum í Reykjanesbæ að Rósaselstorgi í Sveitarfélaginu Garði. Einnig bendir bæjarstjórn á nauðsyn þess að hið fyrsta verði ráðist í framkvæmdir til að tryggja öryggi á gatnamótum á þessari leið.“ Þetta segir í ályktun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Garðs, sem samþykkt var samhljóða á síðasta fundi bæjarstjórnar. Þá segir í ályktuninni: „Umferðarþungi hefur aukist mjög mikið á þessari leið, bæði vegna mikillar fjölgunar farþega um Keflavíkurflugvöll sem og vegna íbúafjölgunar á svæðinu og aukinna umsvifa á mörgum sviðum. Ekki verður búið við óbreytt ástand vegarins öllu lengur, ekki síst vegna öryggis vegfarenda.“ Ályktun bæjarstjórnar hefur verið send til innanríkisráðherra, Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, þingmanna Suðurkjördæmis og Vegagerðarinnar.
Fimm á sjúkrahús eftir árekstur Lagt á ráðin fyrir kosningarnar 2007. Atli Gíslason í pontu.
græn mynduðu ríkisstjórn 2009 og auk rústabjörgunar eftir efnahagshrun gáfust tækifæri til að koma ýmsu í verk, ekki síst stuðningi við nýsköpun, þekkingariðnað og skapandi greinar.
Atvinnulíf og náttúruvernd
Frá upphafi hafa Vinstri græn verið andvíg stóriðjustefnu hægri manna sem kostað hefur áföll bæði fyrir efnahagslíf og náttúru. Hreyfingin barðist gegn Kárahnúkavirkjun og ekki síður gegn álveri í Helguvík vegna stórfelldra virkjana. Í staðinn leggur VG áherslu á fjölþætta atvinnustarfsemi í smáum og meðalstórum fyrirtækjum. Við bentum á að „stóriðja“ var þegar til staðar, nefnilega flugvöllurinn og flugstöðin, og lögðum áherslu á að efla ferðaþjónustu. Umhverfisráðherrann Svandís Svavarsdóttir varð fyrir árásum Suðurnesjaafturhalds fyrir að verja náttúruperlur á Reykjanesskaga og stuðla að því að háspennulínur yrðu metnar ásamt öðrum álversframkvæmdum í Helguvík. Hún benti á að ekki lægi fyrir hvaðan orkan ætti
að koma og vildi staldra við. Svandís var sökuð um að standa í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu en síðar kom í ljós að áform um álver í Helguvík voru byggð á sandi. Þeir varkáru höfðu lög að mæla og álversmannvirkin í Helguvík standa straumlaus. Dýr minnisvarði um atvinnustefnu hægrimanna! Á sama tíma þenst flug- og ferðamannastarfsemin út, atvinnuleysi er hverfandi og skortur á vinnufólki.
■■Fimm voru fluttir undir læknishendur eftir að harður árekstur varð á Reykjanesbraut síðasta laugardag. Atvikið bar að með þeim hætti að ökumaður ók bifreið sinni aftan á aðra bifreið með þeim afleiðingum að hún kastaðist yfir á öfugan vegarhelming. Bifreið sem kom úr gagnstæðri átt hafnaði í hliðinni á síðarnefndu bifreiðinni. Ökumenn tveggja bifreiða voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, en ökumaður og tveir farþegar hinnar þriðju voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík eftir viðkomu á HSS. Ökumaður slasaðist nokkuð en farþegarnir sluppu betur. Allar bifreiðirnar voru óökufærar og voru fluttar af vettvangi með dráttarbifreið.
Bjart framundan
Vinstri græn í Suðurkjördæmi undirbúa nú Alþingiskosningar og leggja brátt fram lista með öflugu fólki með skýr stefnumið um jöfnuð, réttlæti, náttúruvernd, kvenfrelsi, menntir og fleira. Við hvetjum fólk til að kynna sér hvað við höfum fram að færa og vanda valið í kjörklefanum 29. október næstkomandi. Þorvaldur Örn Árnason Í stjórn VG á Suðurnesjum frá upphafi
Ökumenn aki varlega vegna framkvæmda við Hafnaveg ■■Nú eru að hefjast framkvæmdir við gerð undirganga undir Reykjanesbraut við Hafnaveg. Á meðan vinna við undirgögnin stendur yfir verður umferð beint um hjáleið fram hjá vinnusvæðinu. Einnig verður breyting á umferðarskipulagi við Hafnaveg. Verkinu á að ljúka í nóvember. Ökumenn eru hvattir til aka varlega um framkvæmdasvæðið og virða merkingar á staðnum. Það eru Vegagerðin og Reykjanesbær sem standa að framkvæmdum. Verktaki er Ellert Skúlason ehf.
fimmtudagur 15. september 2016
15
VÍKURFRÉTTIR
Í Vogum á Vatnsleysuströnd er karlaklúbbur sem fundar vikulega á fimmtudögum í gömlu björgunarstöðinni. Félagsmenn eru á öllum aldri, sá yngsti um þrítugt og sá elsti um áttrætt. Þeir eiga sér eitt sameiginlegt áhugamál, vélknúin farartæki.
Félagar í Vélavinum í Vogum framan við félagsaðstöðuna á dögunum. VF-myndir: Hilmar Bragi
Gersemar hjá Vélavinum í Vogum Félagsskapurinn kallast Vélavinir í Vogum og varð til fyrir fjórum árum. Lítill hópur hafði verið að hittast á kaffistofu í fyrirtæki í Vogum þar sem umræðan var oftar en ekki bílar og það sem er að finna undir vélarhlífinni. Úr varð að ákveðið var að koma á föstum fundartíma síðasta fimmtudag í mánuði. Það fjölgaði hratt í hópnum og mönnum fannst einn fundur í mánuði ekki vera nóg. Það var því ákveðið að funda vikulega. Hópurinn leitaði til sveitarfélagsins og fékk inni í gömlu björgunarstöðinni við hlið grunnskólans en það húsnæði stóð autt og yfirgefið. Húsið hefur verið tekið í gegn innandyra og rætt hefur verið um að ráðast í lagfæringar á því utanhúss. Vélavinir hafa vakið athygli þegar árleg fjölskylduhátíð er haldin í Vogum
um miðjan ágúst. Þar mæta félagsmenn með bílaflotann sinn og hafa til sýnis. Þá hafa Vélavinir smíðað „járnbrautarlest“ sem samanstendur af togvagni og nokkrum farþegavögnum. Togvagninn er gerður úr gömlum sláttutraktor og vagnarnir úr olíutunnum sem síðan hafa verið skreyttir með vinsælum fígúrum. Þegar Víkurfréttir tóku hús á Vélavinum í Vogum á dögunum voru þeir að ganga frá eftir fjölskyldudagana.
Einar Birgisson, formaður Vélavina í Vogum.
Barracuda, árgerð 1969, í bílskúrnum hjá Einari og bíður þess að vera gerð upp.
Bílarnir í skúrnum hjá Einari eru í ýmus ásigkomulagi.
Lestin var komin í geymslu upp á vegg fyrir veturinn og menn voru að velta fyrir sér amerískum dreka sem stóð inni á gólfi. Einn félagsmanna Vélavina hafði verið að kaupa drekann en ýmislegt á eftir að gera fyrir bílinn áður en hann fer út í umferðina. Þar sem hópurinn stóð yfir ameríska drekanum barst skyndilega verkefni. Gamall Farmall Cub sem stóð fyrir utan félagsheimilið neitaði að fara í gang. Sérfræðingar í hópnum skoðuðu gripinn og ákveðið var að ýta honum í gang. Þar sem hópurinn var kominn út úr húsi þá hófst sögustund á bílastæðinu, vélarhlífar voru rifnar upp og við blöstu glansandi mótorar og greinilegt að mikil natni er lögð í hlutina. Vélavinir í Vogum eru hógværðin uppmáluð. Þegar blaðamaður Víkurfrétta ræddi við þá um þeirra tæki voru svörin yfirleitt á þá leið að þetta væri nú ekkert merkilegt. Það var þó úr að blaðamaður ákvað að taka hús á nokkrum félagsmönnum nokkrum dögum síðar. Allir eiga þeir það sameiginlegt að búa við Hólagötu í Vogum. Einar Birgisson veitir Vélavinum í Vogum formennsku um þessar mundir. Hann er einn þeirra sem búa við Hólagötuna. Hann er með bílskúrinn fullan af bílum, sem eru í ýmsu ásigkomulagi. Í skúrnum er meðal annars fyrsti bíllinn sem Einar eignaðist, Barracuta árgerð 1969. Hann eignaðist bílinn fyrst fyrir margt löngu en segist í samtali við blaðamann hafa átt bílinn alltof stutt þá. Hann hafi varla átt fyrir bensíni á bílinn á sínum tíma og þegar skiptingin hafi hrunið tvisvar seldi hann bílinn. Einar segist hafa séð eftir því og í framhaldinu lagt mikla vinnu í að finna bílinn aftur og eignast hann að nýju. Einar var búinn að taka flotann sinn út úr skúrnum þegar blaðamaður kom í heimsókn, enda sól í heiði og dagur til að viðra fallega bíla. Þarna voru Chrysler New Yorker, Ford Bronco og Chevrolet Van. Einar segist ekki hafa mikið af lausafé og því reyni hann að eignast sína bíla fyrir lítið og leggi
Svona er þetta undir vélarhlífinni hjá mörgun Vélavinum
Anton Númi Magnússon við traktorana í bílskúrnum á Hólagötunni í Vogum.
frekar á sig meiri vinnu við að endurbyggja bílana. Hann viðurkennir að sumir bílarnir hafi komið til hans í slæmu ástandi og oft í mörgum kössum. Misjafnlega gengur að nálgast varahluti. Alla varahluti sé hægt að fá í Bronco meðan lítið sé til í bíla eins og Chrysler New Yorker. Netið og samfélög þar auðveldi hins vegar leitina í dag að varahlutum. Í þar næsta húsi við Einar á Hólagötunni býr Anton Númi Magnússon. Hann er fyrrverandi pípulagningamaður en ver nú öllum stundum í bílskúrnum við að endurbyggja traktora. Traktorarnir hjá Antoni eru mikil listasmíð og útlitið á þeim er eins og þeir séu nýir úr kassanum frá verk-
smiðju. Hann segist líka vilja komast eins nálægt upprunalegu útliti og áferð og mögulegt er. Anton segist ekki vera mikill tölvumaður og fær vin sinn til að panta þá varahluti sem þarf af netinu. Auðvelt sé að nálgast varahluti í traktorana. Nú er Anton að gera upp árgerð 1956 af Deutz og innar í skúrnum Farmall Cub sem er tilbúinn. „Ég myndi setja hann í gang fyrir þig ef brunaviðvörunarkerfið í húsinu færi ekki í gang,“ segir Anton og brosir. Hann segist hafa gert upp 4 til 5 traktora frá grunni en ætar nú að fara segja þetta gott. Í innkeyrslunni við heimili Antons stendur Chevrolet Blazer s10 Sport árgerð 1987. Sá bíll er sagður eiga mikla sögu en hefur gengið í gegnum mikla endurnýjun. Bíllinn var áður í eigu Landsbanka Íslands og tengist grænum baunum og Steingrími Hermannssyni. Í dag hefur Blazernum verið breytt í pallbíl. Nánar er fjallað um Vélavini í Vogum í Sjónvarpi Víkurfrétta á vf.is og sjónvarpsstöðinni ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld klukkan 21:30.
Félagsaðstaða Vélavina er í gömlu björgunarstöð Skyggnis í Vogum.
16
VÍKURFRÉTTIR
LAUS STÖRF ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ NJARÐVÍKUR
Hlutastarf við þjónustu
HÆFINGARSTÖÐIN
Starfsmaður í fullt starf
HÆFINGARSTÖÐIN
Hlutastarf við ræstingar
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
VIÐBURÐIR FORELDRAMORGUNN Í BÓKASAFNI REYKJANESBÆJAR Í dag, fimmtudaginn 15. september kl. 11.00, kynnir Guðný Reynisdóttir uppeldisnámskeiðið Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar á foreldramorgni í Bókasafni Reykjanesbæjar. Allir foreldrar hjartanlega velkomnir. HLJÓMAHÖLL 22. september - Dúndurfréttir 7. október – Trúbrot flytur Lifun 14. október – Kvöld með Ladda 18. nóvember – Júníus Meyvant Allar nánari upplýsingar og miðasala á www.hljomaholl.is og í síma 420-1030.
fimmtudagur 15. september 2016
Minjar og mannlíf – Tyrkjabyrgin í Eldvörpum Menningarminjadagar eru haldnir ár hvert í þeim 50 löndum sem hlut eiga að Menningarsáttmála Evrópu, allt frá Aserbæsjan í austri, til Portúgals í vestri og norður til Noregs. Markmið þessara daga er að vekja athygli og áhuga á ríkri og fjölbreyttri menningu þeirra samfélaga sem byggja álfuna. Þema ársins 2016 er „Minjar og mannlíf “. Nánar má fræðast um viðburði í einstökum löndum á www. europeanheritagedays.com. Laugardaginn 17. september n.k. verður blásið til menningarminjadags hér á landi og boðið verður upp á fjölbreytta viðburði víðs vegar um land, sem tengjast á einn eða annan hátt mannífi og sögu fyrri tíma. Allir viðburðirnir eiga það sameiginlegt að vera í höndum fyrirmyndaraðila sem starfa með menningarminjar. Minja- og sögufélag Grindavíkur stendur fyrir göngu um Eldvörp. Þar verða skoðaðar merkilegar fornleifar og ber hæst Tyrkjabyrgin svonefndu, sem eru 10 tóftir í hraunkrika sunnan undir og ofan á Sundvörðuhrauni. Tóftirnar fundust fyrir tilviljun veturinn 1872, en elstu lýsingu á þeim er að finna í Ferðabók Þorvaldar Thoroddsen sem skoðaði þær árið 1883. Tyrkjabyrgin eru allmikil mannvirki, misstór en stærsta tóftin er um það bil 4 x 1,5 m að ummáli. Engar heimildir hafa fundist um þessar rústir og hafa því verið uppi getgátur um tilvist þeirra. Mæting er laugardagsmorguninn 17. september kl. 10 við Geo Hotel í Grindavík.
Tyrkjabyrgin eru allmikil mannvirki sem fundust veturinn 1872 og hafa verið getgátur um tilvist þeirra.
Ég er þakklátur fyrir stuðninginn
SÚLAN – TILNEFNINGAR ÓSKAST Menningarráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum vegna menningarverðlauna Reykjanesbæjar, Súlunnar. Tilnefningum skal skilað í Ráðhúsið Tjarnargötu 12 eða á netfangið: sulan@reykjanesbaer.is fyrir 1. október nk. Upplýsingar um verðlaunahafa fyrri ára og nánari reglur má finna á vef Reykjanesbæjar.
Auglýsingasíminn er
421 0001
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fór fram um síðustu helgi og var þátttakan framar vonum. Ég vil þakka öllum þeim rúmlega 4000 sem tóku þátt í prófkjörinu og gerðu það jafn glæsilegt og raun varð á. Ég bauð mig fram í 1. til 2. sætið á listanum og fékk mjög góða kosningu og uni glaður við mitt. Það er auðvitað mjög góður árangur að ná öðru sætinu á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Auk þess er ég að fá góða almenna kosningu og yfir 70% þátttakenda völdu mig í sæti á listanum sem sýnir góða breidd. Þegar ég lít til baka er ég sáttur við þá vinnu sem ég og stuðningsmenn mínir lögðu í prófkjörið. Við höfðum að leiðarljósi þau verk sem ég hef unnið í þinginu og gleðina sem var ósvikin allan tíman. Ég og Sigga viljum þakka öllu því góða fólki sem studdi mig og vann langan vinnudag
til að ná þessum árangri sem ég hefði
Samhentur vinnusamur listi
Ásmundur Friðriksson alþingismaður.
aldrei náð nema vegna þeirra framlags. Ég er ykkur öllum afar þakklátur. Ég mun halda mínu striki og undirbúningur fyrir næstu kosningar hófst strax á mánudagsmorgun með heimsókn í tvö fyrirtæki áður en ég fór á morgunfundi í þinginu, þingmennska
Tímabil er frá 15. september 2016 til 15. maí 2017.
HÚSAVAGNAHÝSING Vantar þig húsnæði fyrir tjaldvagninn eða fellihýsið.Við hjá Völundarhúsum erum að bjóða upphitað og snyrtilegt húsnæði að Bogatröð 25 235 Ásbrú Reykjanesbæ. Ef þú vilt tryggja þér pláss hjá okkur sendu okkur þá tölvupóst á volundarhus@volundarhus.is. Nánari upplýsingar í síma 864 - 2400. Bestu kveðjur, Ástþór Bjarni. Leiguverð per meter. Tjaldvagnar -11.000 kr. Fellihýsi -13.000 kr.
er endalaus vinna ef árangur á að nást og ég mun hvergi slá af. Í prófkjörinu hlaut Páll Magnússon glæsilega kosningu í 1. sætið eins og Vilhjálmur Árnason í það 3ja. Ég óska þeim báðum til hamingju með árangurinn eins og öðrum frambjóðendum sem ég þakka samstarfið. Ég vona að það unga fólk sem tók þátt í prófkjörinu verði áfram með okkur til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins til sigurs í kosningunum í haust. Ég hef rætt við Pál og Vilhjálm og við ætlum að standa saman um það sem við sögðum í prófkjörsbaráttunni að mynda samhentan vinnusaman lista. Samstarf þinganna er eina leiðin til að ná árangri fyrir þau verkefni sem framundan eru og ég hlakka sannarlega til þess. Um næstu helgi tekur Kjördæmisráð Suðurkjördæmis ákvörðun um endanlegan lista á fundi á Selfossi. Þar er mikilvægast að hagsmunir heildarinnar verði hafðir að leiðarljósi og að við stöndum saman um niðurstöðuna og göngum sameinuð til kosninganna 29. október næstkomandi.
ARI TRAUSTI LEIÐIR VG Í SUÐURKJÖRDÆMI ■■Tillaga uppstillinganefndar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurkjördæmi vegna Alþingiskosninga þann 29. október 2016 var samþykkt á félagsfundi í Selinu á Selfossi um síðustu helgi. Dagný Alda Steinsdóttir er efst Suðurnesjamanna á listanum sem er svona skipaður: 1. Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur, Reykjavík. 2. Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, sauðfjárbóndi og sveitarstjórnarfulltrúi, Skaftárhreppi. 3. Daníel E. Arnarsson, háskólanemi, Hafnarfjörður.
4. Dagný Alda Steinsdóttir, innanhúsarkitekt, Reykjanesbæ. 5. Helga Tryggvadóttir, námsog starfsráðgjafi, Vestmannaeyjar. 6. Þorvaldur Örn Árnason, eftirlaunamaður, Reykjanesbæ. 7. Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, nemi, Höfn í Hornafirði. 8. Gunnar Þórðarson, tónskáld, Reykjavík. 9. Hildur Ágústsdóttir, kennari, Rangárþing eystra. 10. Gunnhildur Þórðardóttir, myndlistarmaður, Reykjanesbæ.
STARFSEMI NES ER HAFIN FRÍTT AÐ PRÓFA ÆFINGAR Í TVÆR VIKUR
SUND ELDRI ÆFING Mánudagar kl. 17:00-18:00 (Akurskóli) Miðvikudagar kl. 17:00-18:00 (Akurskóli) Fimmtudagar kl. 17:00-18:00 (Vatnaveröld)
SUND YNGRI ÆFING Mánudagar kl. 16:15-17:00 (Akurskóli) Miðvikudagar kl. 16:15-17:00 (Akurskóli)
GARPASUND (ELDRI) Þriðjudagar kl. 18:15-19:15 (Heiðarskóli)
LYFTINGAR (16 ÁRA OG ELDRI) Fimmtudagar kl.18:30-19:30 (eftir að finna húsnæði)
FRJÁLSAR ELDRI ÆFING Mánudagar kl. 18:15-19:15 (Heiðarskóli) þriðjudagar fyrir kúluvarp kl. 20:30-21:30 (Reykjaneshöll)
FRJÁLSAR YNGRI ÆFING Mánudagar kl. 17:15-18:15 (Heiðarskóli)
FÓTBOLTI FYRIR ELDRI EN 15 ÁRA Þriðjudagar kl. 20:30-21:30 Reykjaneshöll Föstudagar kl. 20:30-21:30 Reykjaneshöll
FÓTBOLTI YNGRI ÆFING Föstudagar kl 20.30 Reykjaneshöll Ath mun breytast
FIMLEIKAR ELDRI ÆFING Mánudögum kl. 20:00- 21.30 fimmtudögum kl. 20:00- 21.30
FIMLEIKAR YNGRI (5 - 11 ÁRA) Laugardögum kl.13:00 - 14.30
BOCCIA ELDRI ÆFING Miðvikudagar kl.18.15-20.00 (Heiðarskóli) Grindavík Mánudagar kl. 19:00 - 20:00 Blandaður hópur
BOCCIA YNGRI ÆFING Miðvikudagar kl.17:15-18:15 (Heiðarskóli)
NÁNARI UPPLÝSINGAR MÁ FINNA INNÁ WWW.NESSPORT.IS
NES ER ÍÞRÓTTAFÉLAG FYRIR EINSTAKLINGA MEÐ FATLANIR/RASKANIR SEM ÞURFA AF EINHVERJUM ÁSTÆÐUM EINSATKLINGSMIÐAÐA AÐSTOÐ OG ÞJÁLFUN.
NES ÍÞRÓTTAFÉLAG FATLAÐRA Á SUÐURNESJUM
orsteinn , ett nafnið mömmu Þorvaldsfyrir miðju það) systir mín kki Ösk)
18
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 15. september 2016
SNJÖLL ÖPP ÞÓRÓLFS: Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Birgir Guðnason,
Hringbraut 46, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnudaginn 11. september sl. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 22. september kl. 13.00. Harpa Þorvaldsdóttir, Björk Birgisdóttir, Guðni Vignir Sveinsson, Sóley Birgisdóttir, Ingólfur H. Matthíasson, Börkur Birgisson, Hafdís Hafsteinsdóttir, Ösp Birgisdóttir, Rúnar Ingi Hannah, Burkni Birgisson, Rakel Lind Hauksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Spilar sjóræningjaleik á ferðalögum Þórólfur Júlían Dagsson er 28 ára sjómaður úr Reykjanesbæ sem þessa dagana stendur í ströngu í kosningabaráttu en hann skipar 3. sæti á lista Pírata í Suðurkjördæmi í kosningum til Alþingis sem eru á næsta leiti. Þórólfur hefur stundað sjóinn í níu ár og á 4 ára gamla dóttur, Ólafvíu Sóleyju. Nú í kosningabaráttunni vantar hann fleiri klukkustundir í sólarhringinn og hefur ekki komist í ræktina í sex vikur. Þórólfur var einn af stofnendum Pírata og dró sig svo í hlé frá starfinu en byrjaði aftur árið 2014 og hefur tekið þátt í mótun sjávarútvegsstefnu flokksins. Hann segir hér frá þeim öppum sem hann notar mest í símanum og það þarf ekki að koma á óvart að eitt þeirra er sjóræningaleikur. Slack#
Ég nota Slack í samskiptum og skipulagningu á starfinu innan flokksins. Þetta er mikilvægt tól til þess að hafa skipulag á samskiptum og verkefnastjórnun.
Facebook appið
PokemonGo
Snapchat
Assassin’s Creed Pirates
Örugglega mest notaða appið í símanum mínum þessa dagana, það kemur gríðarlegt magn af spurningum til manns í gegnum Facebook og flestir eru þar.
ATVINNA
Keflavíkurkirkja auglýsir 75% starf laust til umsóknar, starfið felur í sér ræstingar á kirkju og Kirkjulundi auk ýmissa tilfallandi starfa kirkjuvarðar. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslenskri tungu. Vinnutími er frá kl. 8:30 – 15:00. Laun eru skv. kjarasamningi VSFK og nágr. Umsóknarfrestur er til 30. september. Umsóknir sendist Keflavíkurkirkju, bt. Þórunnar Í. Þórisdóttur, Kirkjuvegi 25, 230 Keflavík eða í tölvupósti thorunn@keflavikurkirkja.is Keflavíkurkirkja er reyklaus vinnustaður.
Ég hef ekki verið nógu duglegur að senda frá mér Snapchat video undanfarna daga en það er allt að fara af stað aftur. Notendanafnið mitt er kelazam fyrir þá sem að vilja fylgjast með.
Ég hef ekki haft tíma til þess að leika mér þessa dagana en ég er komin upp í lvl 21 og á Vaporeon er ég með 1763 í cp og er í Team Instinct. Mjög skemtilegur sjóræningja leikur sem auðvelt er að hoppa í og úr. Ég spila hann þegar ég er að ferðast langar vegalengdir sem farþegi. Mæli með þessum leik.
Sjónvarp Víkurfrétta • fimmtudagskvöld kl. 21:30 • ÍNN og vf.is
Norðurbær / Suðurbær ... er skemmtilegt fótboltamót í Sandgerði. Vélavinir í Vogum, nýtt hótel á Ásbrú og Fab Lab eru meðal viðfangsefna okkar í þætti vikunnar frá Sjónvarpi Víkurfrétta sem sýnt verður í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21:30 á ÍNN og vf.is. Einnig fáum við fréttapakka frá Suðurnesjum.
Horfðu í tölvunni eða snjalltækinu í háskerpu Norðurbær / Suðurbær
ALLSHERJAR Framboðslistum sé skilað á skrifstofu Verslunarmannafélags Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14, Reykjanesbæ, eigi síðar en kl. 12:00, föstudaginn 22. september nk. Öðrum listum en lista stjórnar skulu fylgja meðmæli 50 fullgildra félagsmanna. Kjörstjórn
Base hotel
FabLab
Sjónvarp Víkurfrétta er í háskerpu á vf.is
ATKVÆÐAGREIÐSLA
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör aðalog varafulltrúa á þing ASÍ sem haldið verður dagana 26. – 28. október n.k. Kosið er um þrjá aðalfulltrúa og þrjá til vara.
Vélavinir í Vogum
SMÁAUGLÝSINGAR Tapað/fundið
Óskast
Startkaplar töpuðust við Lyngholt 10, finnandi hafið samband í síma 4213711.
3ja herbergja íbúð óskast til leigu í Keflavík, Sandgerði eða Garði. Reglusemi og skilvísar greiðslur. Hafið samband í s: 762-8036.
Þjónusta DANS DANS DANS Hjón/pör dansnámskeið í KK salnum. Innritun og upplýsingar í síma 8662640 Harpa Páls. DANS DANS DANS Hjón/pör dansnámskeið í KK salnum. Innritun og upplýsingar í síma 8662640 Harpa Páls.
Verið velkomin
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
fimmtudagur 15. september 2016
19
VÍKURFRÉTTIR
Erfiðasti leikur sem ég hef spilað ●●segir Keflvíkingurinn Sigurbergur Elísson, ● leikmaður 20. umferðar Inkassodeildarinnar Keflvíski framherjinn Sigurbergur Elísson var kjörinn leikmaður 20. umferðar í Inkasso-deildinni í knattspyrnu en hann fór mikinn í 4-0 sigri Keflvíkinga á Leikni í síðustu umferð. Elís Kristjánsson, faðir Sigurbergs, lést í síðustu viku eftir baráttu við krabbamein. Sigurbergur segir í viðtali við fotbolti.net að það hafi verið erfitt að leika þennan leik.
Njarðvíkingar fá nýja leikmenn ■■Njarðvíkingar hafa samið við Bandaríkjamanninn Corbin Jackson, miðjherja frá háskólaliðinu, Florida Tech, til að leika með liðinu næstu keppnistíð. Kappinn er 24 ára og kemur beint úr skólanum í Bandaríkjunum. Jackson sem er 2.01 metri á hæð var í sömu deild og Elvar Már Friðriksson og var valinn varnarmaður deildarinnar 3 ár í röð. Jackson er einnig iðinn við skorun því hann var stiga- og frákastahæsti leikmaður Florida Tech á síðasta tímabili með 20 stig og átta fráköstu að meðaltali í leik. Njarðvíkingar ætla sér stóra hluti í vetur en þeir verða með tvo Bandaríkjamenn í liðinu. Stefan Bonneau er á leið til landsins en hann var frá alla síðustu leiktíð. Stefan sló í gegn tímabilið á undan og er frábær leikmaður. Njarðvíkingar hafa verið að sanka að sér flinkum leikmönnum því fyrr í sumar fengu þeir Jóhann Árna Ólafsson heim aftur sem og þá Birni Kristjánsson frá KR og Jón Sverrisson.
„Það var virkilega erfitt. Án efa erfiðasti leikur sem ég hef þurft að spila. En eitthvað sem ég vildi gera fyrir hann og fyrir sjálfan mig. Ég var líka búinn að lofa honum 3 stigum þannig að mér fannst ég þurfa að spila þennan leik til þess að ná að kveðja hann fullkomlega,“ sagði Sigurbegur við Fótbolta.net. Elís var þjálfari hjá Keflavík um árabil og hans var minnst fyrir leikinn á laugardag. „Mér brá aðeins þegar við löbbuðum inn á völlinn, „You´ll never walk alone“ var spilað honum til heiðurs enda var hann gallharður „Púlari“. Svo var mínútuþögn, erfið stund en liðsfélagar mínir stóðu þétt við bakið á mér.“ Sigurbergur segir að 4-0 sigur Keflvíkinga hafi ekki verið jafn auðveldur og tölurnar gefa til kynna. „Nei get ekki sagt það, það var ekki fyrr en við settum annað markið að við náðum algjörum tökum á leiknum. Þá var eins og það kom einhver ró yfir okkur og við náðum góðu spili og héldum boltanum vel, eitthvað sem hefur vantað upp á hjá okkur oft í sumar.“ Keflvíkingar eru í 3. sæti í Inkassodeildinni, átta stigum frá öðru sætinu þegar tvær umferðir eru eftir.
Sigurbergur Elísson var valinn leikmaður 20. umferðar Inkasso deildarinnar.
Hvað vantaði upp á hjá liðinu til að gera meiri atlögu að því að fara upp í sumar? „Við höfum ekki náð að klára leikina okkar. Of mörg jafntefli. Við höfum ekki náð að stjórna leikjum nógu vel
þegar við eigum að gera það. Það eru svo margir litlir hlutir sem við hefðum getað gert svo miklu betur. Þetta féll bara ekki fyrir okkur í ár á meðan lið eins og KA og Grindavík kláruðu sín verkefni.“
Stórsigur hjá Keflavík og Grindavík tapaði í markasúpu Keflavík er í 3. sæti 1. deilar karla í knattspyrnu eftir stórsigur á Leikni F. á Nettóvellinum í Keflavík um helgina. Þeir komast hins vegar ekki ofar
í deilinni þar sem KA og Grindavík hafa þegar tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni að ári.
Það voru þeir Sigurbergur Elísson, Jóhann Birnir Buðmundsson, Jónas Guðni Sævarsson og Magnús Sverrir Þorsteinsson sem skoruðu mörk Keflavíkur í leiknum. Grindvíkingar misstu hins vegar af mikilvægum stigum í baráttunni um efsta sætið. Þeir töpuðu 4-3 fyrir Þór norður á Akureyri á sama tíma og KA-menn unnu sigur á Fjarðabyggð. KA-menn eru með 4 stiga forystu á toppi deildarinnar þegar tveir leikur eru eftir af mótinu. Grindvíkingar mæta KA-mönnum í baráttunni um toppsætið nk. laugardag á sama tíma og Keflvíkingar fá Þór í heimsókn til Keflavíkur en Þór er einu stigi fyrir neðan Keflavík í fjórða sæti deildarinnar.
Ertu í 8.9.eða 10.bek
ERTU UNGLINGUR?
k?
LANGAR ÞIG AÐ TA
KA ÞÁTT Í LEIKRIT
I?
Suðurnesjasigrar í undanúrslitum ●●1. deildar kvenna
Bæði Grindavík og Keflavík unnu sigra í fyrri undanúrslitaleikjum sínum í 1. deild kvenna sem fram fóru um helgina. Grindavík er í mjög góðum málum í eftir sigur á ÍR en leikurinn fór fram á ÍR-vellinum í Breiðholti. Grindvíkingar unnu leikinn með tveimur mörkum gegn engu. Sashana Carolyn Campbell og kom Grindvíkingum í 1-0 og Marjani Hing-Glover skoraði seinna mark Grindavíkurkvenna. Keflavík sigraði Hauka 1-0 en leikurinn fór fram í Keflavík. Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði eina mark leiksins eftir rúmlega klukkutíma leik.
og Menningarfélagið Gylturnar Kynningarfundur fyrir næsta verk Leikfélags Keflavíkur verður haldinn fimmtudaginn 15.september kl.20.00 í Frumleikhúsinu. Aðeins fyrir unglinga í 8.9. & 10. bekk á Suðurnesjum
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001
Mundi STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
Þeir riðu sem sagt ekki feitum hesti á golfvellinum.
instagram.com/vikurfrettir
Má bara ríða á sérmerktum stöðum
Léku lausum hala á golfvelli ■■Hópur hrossa, sem sloppið hafði úr girðingu, lék lausum hala á golfvelli Grindavíkur síðasta sunnudag. Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um hrossin sem reyndust vera fimmtán talsins. Haft var símasamband við eigandann sem ætlaði að sjá um að koma hrossunum aftur í girðinguna. Talsverðar skemmdir eru taldar hafa orðið á að minnsta kosti tveimur brautum vallarins.
RÉTTAÐ Í ÞÓRKÖTLUSTAÐARÉTT Á LAUGARDAGINN ■■Réttað verður í Þórkötlustaðarétt í Grindavík laugardaginn 17. september kl. 14:00. Réttirnir eru oftast vel sóttar af gestum og stundum má vart á milli sjá hvor hópurinn er fjölmennari, menn eða sauðfé. „Við biðjum gesti um að sýna tillitssemi við bændur og sauðfé og hvetjum sem flesta til að nýta sér göngustíga meðfram Austurvegi og skilja bílana eftir heima,“ segir á vef Grindavíkurbæjar.
■■Það er stranglega bannað að ríða í Grindavík nema á sérstaklega merktum stöðum. Þeir sem eru ríðandi á öðrum stöðum geta átt von á afskiptum lögreglu. Þeir sem ætla til dæmis að ríða á göngu- og hjólreiðastígum eru ekki vel séðir. Að gefnu tilefni vilja bæjaryfirvöld í Grindavík benda bæjarbúum á að umferð reiðhesta er bönnuð innan þéttbýlismarka annars staðar en á merktum reiðstígum nema með sérstöku leyfi eða samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar, sbr. 30. gr. 7. kafla lögreglusamþykktar. Innan bæjarmarka Grindavíkur má finna fjölmarga reiðstíga sem hestamenn geta nýtt sér að vild. Á vef Grindavíkurbæjar var birt mynd af hrossum sem var riðið eftir göngu- og hjólreiðastíg við höfnina. Önnur mynd sýndi hrossaskít á götu og sáu bæjaryfirvöld því tilefni til að benda á regluverkið.
VF.IS Í NÝJUM FÖTUM
FYLGSTU MEÐ Í... TÖLVUNNI
SNJALLSÍMANUM
SPJALDTÖLVUNNI