• fimmtudagurinn 22. september 2016 • 37. tölublað • 37. árgangur
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Heimalestur í haustsólinni Vinkonurnar Sunneva Dís Sigurðardóttir og Anna María Hermannsdóttir sátu saman í haustsólinni fyrir utan Fjölbrautaskóla Suðurnesja í vikunni. Þær eru 8 ára gamlar og nýttu tímann vel á meðan þær biðu eftir systur annarrar þeirra og lásu í lestrarbókunum sínum. Fjörutíu ára afmæli skólans verður fagnað á laugardaginn með opnu húsi. Nánar á bls. 12 til 13. VF-mynd/dagnyhulda
Tafir á fjármögnun kísilvers Thorsil
FÍTON / SÍA
■■Fjármögnun á kísilveri Thorsil í Helguvík mun tefjast en að öllum líkindum ljúka á næstu vikum. Til stóð að ljúka við fjármögnun verksmiðjunnar síðasta sumar. Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsil, sagði í viðtali við Viðskiptablaðið að samningagerð hafi tekið lengri tíma en gert hafi verið ráð fyrir. Bankar geri ríka kröfu um að allar ábyrgðir séu í lagi og það taki tíma að klára slík mál. Haft er eftir honum að erfitt sé að segja til um það nákvæmlega hvenær fjármögnun verði lokið en gangi hún samkvæmt áætlun verði það á næstu vikum. Áætlað er að kostnaður við byggingu verksmiðju Thorsil í Helguvík verði um 32 milljarðar og að hún taki til starfa í lok árs 2018.
einföld reiknivél á ebox.is
Góð samstaða skilaði árangri ●●Tvö hringtorg samþykkt og tvöföldun Reykjanesbrautar að flugstöð á samgönguáætlun „Ef samfélagið á Suðurnesjum tekur sig saman eins og gerðist í þessu verkefni, næst árangur. Íbúar, þingmenn og sveitarstjórnir stóðu saman í þessu og það skilaði þeim árangri að gerð verða tvö hringtorg við Reykjanesbraut á næstu tveimur árum, Hafnavegur verður tengdur við hringtorg á Fitjum og tvöföldun brautarinnar að flugstöð er komin inn á samgönguáætlun,“ sagði Ísak Kristinsson, talsmaður hópsins - Stopp, hingað og ekki lengra. Málefni sem hópurinn hefur staðið fyrir, sem snýr að öruggari Reykjanesbraut, vakti athygli frá því í byrjun júlí, allt frá því hörmulegt banaslys varð á gatnamótum Hafnavegar og Reykjanesbrautar. Umræða Stopp-hópsins fékk hlustun og forsvarsmenn hans eru sáttir með hvernig afgreiðslu málið fékk á Alþingi í vikunni en óskir hópsins rötuðu inn í samgöngu-
áætlun sem gert er ráð fyrir að afgreidd verði frá þinginu í dag, fimmtudag. Hópurinn, sem setti þetta mál í gang, gerði ýmislegt til að vekja athygli á því, útbjó vegaskilti, gerði myndskeið sem sýnd voru á samfélagsmiðlum, átti fundi með þingmönnum, sveitarstjórnum og ráðherrum og var síðan í góðu sambandi við rúmlega sextán þúsund manns sem gengu í hópinn í gegnum Facebook frá 8. júlí síðastliðnum. Guðbergur Reynisson, upphafsmaður hópsins, sagðist afar ánægður með hvernig þetta mál hafi gengið. Það hafi frá upphafi verið ákveðið að hafa þetta þverpólitískt og það hafi gengið eftir með hjálp margra aðila. Erfitt sé að þakka nokkrum einstökum en þó séu forsvarsmenn hópsins afar ánægðir með framlag þingmannanna Vilhjálms Árnasonar og Svandísar Svavarsdóttur, sem bæði eiga sæti í samgöngunefnd.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
Að ofan má sjá framkvæmdasvæði við gatnamót Hafnavegar og Reykjanesbrautar þar sem komið verður fyrir undirgöngum. Að neðan eru svo gatnamótin við Þjóðbraut þar sem útbúið verður hringtorg á næsta ári. VF-myndir: hilmarbragi
2
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. september 2016
Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ ekki ánægðir með breytingar á listanum ●●Einn fulltrúi úr stærsta byggðarlaginu ● í Suðurkjördæmi á 20 manna lista og er í 7. sæti „Ég er ekki sáttur við þessa niðurstöðu og við fulltrúar úr Reykjanesbæ vildum að úrslit prófkjörsins fengju að standa. Við mættum með breytingartillögu en hún fékk heldur ekki hljómgrunn svo við drógum hana til baka. Niðurstaðan var ekki nógu góð fyrir okkur, við missum ráðherra og fáum svo bara einn fulltrúa úr Reykanesbæ á tuttugu manna lista,“ sagði Guðbergur I. Reynisson, formaður sjálfstæðisfélags Reykjanesbæjar en fulltrúaráð flokksins í SuðurGuðbergur Reynissson, kjördæmi lagði fram formaður sjálf- breytingar á listanum stæðismanna í sem voru samþykktar Reykjanesbæ á fundi á Selfossi í gær. Vitað er að formaðurinn og fleiri vildu að Ísak Kristinsson færðist upp í 5. sæti en hann endaði í 6. sæti í prófkjörinu. Niðurstaðan var sú að hann fékk 7. sætið. Bryndís Einarsdóttir sem endaði í 8. sæti í prófkjörinu fékk ekki sæti á listanum og heldur ekki þeir Kristján Óli Sigmundsson, Árni Johnsen og Oddgeir Á. Ottesen. Guðbergur sagðist einnig hissa á því að Ragnheiði Elínu Árnadóttur hafi ekki verið boðið heiðurssæti á listanum. Listinn í heild sinni er eftirfarandi: 1. sæti - Páll Magnússon fjölmiðlamaður 2. sæti - Ásmundur Friðriksson
Frá fundi barnanna af Holti með bæjaryfirvöldum.
Ísak Ernir Kristinsson er efstur þeirra sem búa í Reykjanesbæ á lista sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Hann er í 7. sæti.
alþingismaður 3. sæti - Vilhjálmur Árnason alþingismaður 4. sæti - Unnur Brá Konráðsdóttir alþingismaður 5. sæti - Kristín Traustadóttir endurskoðandi 6. sæti - Hólmfríður Erna Kjartansdóttir, skrifstofustörf 7. sæti - Ísak Ernir Kristinsson deildarstjóri 8. sæti - Brynjólfur Magnússon lögfræðingur 9. sæti - Lovísa Rósa Bjarnadóttir framkvæmdastjóri 10. sæti - Jarl Sigurgeirsson tónlistarkennari 11. sæti - Laufey Sif Lárusdóttir
umhverfisskipulagsfræðingur 12. sæti - Jón Bjarnason bóndi 13. sæti - Hjördís Guðrún Brynjarsdóttir sjúkraþjálfari 14. sæti - Bjarki V. Guðnason sjúkraflutningamaður 15. sæti - Helga Þórey Rúnarsdóttir leikskólakennari 16. sæti - Þorkell Ingi Sigurðsson framhaldsskólanemi 17. sæti - Ragnheiður Perla Hjaltadóttir hjúkrunarnemi 18. sæti - Alda Agnes Gylfadóttir framkvæmdastjóri 19. sæti - Sandra Ísleifsdóttir húsmóðir 20. sæti - Geir Jón Þórisson, fyrrverandi lögreglumaður
LEIKSKÓLABÖRN TIL FUNDAR VIÐ BÆJARSTJÓRA ●●Vilja fá að snerta blöðrurnar á næstu Ljósanótt Það sannaðist á dögunum að íbúar í el Örn, Rebekka Júlía, Arnar þór og Reykjanesbæ á öllum aldri eru virkir Telma Líf komu ásamt kennara sínum, Sigurbjörtu Kristí umræðunni og jánsdóttur, með nýta lýðræðið til vel skreytt umslag að koma hugm e r kt Kj ar t an i myndum sínum Má bæjarstjóra. á framfæri. Átta Í umslaginu var fjögurra og fimm bréf með ef tirára börn af Dal í farandi hugmynd. leikskólanum Holti „Viltu setja band á komu í viðtalsboltann eða segul tíma til bæjarstjóra á Ljósanótt?“ Helgi og komu þeirri Arnarson, sviðshugmynd sinni á stjóri fræðslusviðs, framfæri um það kom á f undinn hvernig væri hægt og ætla hann og að koma því við að Kjartan Már að öll börn á setningu sj á lfs ögð u t a ka Ljósanæturhátíðar hugmyndina til fengju að snerta Bréfið góða sem börnin greina og þökkuðu eða slá í stóran færðu bæjarstjóra. frábært innlegg í Ljósanæturbolta. stjórn bæjarins. Sum höfðu ekkert fengið að snerta bolta á síðustu Ljósa- Kjartan Már sagði þetta einhverja skemmtilegustu heimsókn sem hann nótt og fannst það miður. Þau Alexander Liljar, Fannar Ingi, hefði fengið. Emma Ástrós, Sóley Björk, Gabrí-
STÖRF HJÁ IGS IGS leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytileg og skemmtileg störf hjá fyrirtækinu. Um er að ræða störf í Farþegaafgreiðslu. Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi, sveiganleika og árvekni. Unnið er á vöktum. Nánari upplýsingar um aldurstakmark og hæfniskröfur. FARÞEGAAFGREIÐSLA Starfið felst m.a. í innritun farþega og annarri tengdri þjónustu við þá. Lágmarksaldur 20 ár, stúdentspróf æskilegt en ekki skilyrði, góð tungumála -og tölvukunnátta. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið.
Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS www.igs.is fyrir 30. september 2016
Leanna Cheecin og Josiah Lue taka við glaðningi frá Hlyni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Isavia.
Fimm milljónasta farþeganum fagnað Farþegar um Keflavíkurflugvöll það sem af er ári eru orðnir yfir fimm milljónir. Um hádegi á þriðjudag var það parið Leanna Cheecin Lau og Gregory Josiah Lue sem komu fjöldanum yfir fimm milljóna múrinn. Starfsfólk Isavia tók vel á móti þeim og fengu þau að gjöf flug frá WOW air, gjafaöskju frá Fríhöfninni, blómvönd auk þess sem veitingastaðurinn
Nord á Keflavíkurflugvelli tók á móti þeim með glæsilegri máltíð. Parið var á leið til Baltimore með Wow Air og þaðan til Los Angeles þar sem þau eru búsett. Leanna og Gregory fara í eina utanlandsferð á ári og ákváðu þetta árið að fara til Íslands í eina viku. Þau voru mjög ánægð með ferðina og skoðuðu meðal annars Jökulsárlón, Gullfoss og Geysi.
Nýttu Aukakrónurnar þínar í Reykjanesbæ Kynntu þér allt um Aukakrónur inni á landsbankinn.is
420 7001 • lifsstill.net
markhönnun ehf
HEILSU OG LÍFSSTÍLSBLAÐ NETTÓ 120 SÍÐUR AF FRÓÐLEIK OG FRÁBÆRUM TILBOÐUM
a r a v t a M K R A M A L G N Ä 15%
GÆÐI
Við velju hráefni o hvort sem frostþurr eða hvei
AFSLÁTTUR
IC ECOLAB RD
25% AFSLÁTTUR
EL
NO
Öll matvara frá Anglamark er lífrænt vottuð og sérvalin til að tryggja gott bragð og gæði framleiðslunnar
FI
25% AFSLÁTTUR
25%
25%
AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR
25% AFSLÁTTUR
LIMA
HEILSUMJÓLK
25% AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR AF VÍTAMÍNUM OG BÆTIEFNUM
25% AFSLÁTTUR
Tilboðin gilda 15. – 25. september 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
TÓ
%
ALLT AÐ
25% HEILSU & LÍFSSTÍLSDAGAR 15. - 25. SEPTEMBER AFSLÁTTUR AF HEILSU- & LÍFSSTÍLSVÖRUM
GÆÐI TRYGGÐ
FAIR TRADE
Við veljum bestu fáanlegu hráefni og uppruna þeirra, hvort sem um er að ræða frostþurrkuð og möluð acai ber eða hveitigras frá Nýja Sjálandi.
Við vinnum með siðferðislega ábyrgum birgjum á borð við Sambazon sem styður ræktendur sína, fjárfestir í samfélögum þeirra og virðir náttúruna.
Frábært náttúrulegt jurtaprótein, unnið úr helstu ofurfæðum sem náttúran hefur fram að bjóða.
25% AFSLÁTTUR
FIMMTUDAGUR 22. SEPT
Tilboð dagsins
30%
33%
AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR
HIMNESK HOLLUSTA RÍSKÖKUR 3 TEGUNDIR VERÐ ÁÐUR: 299 KR/PK KR/PK
33% | 200
KYNNINGAR Í VERSLUNUM NETTÓ 22.
SEPT
23.
SEPT
ÁÐUR: 1.434 KR/PK
956 KR/PK
kl:14-16 Nettó Borgarnesi - Ragga Nagli kl:15-18 Nettó Krossmóa - HH Hrískökur m/súkkulaði & Bai kl:16-19 Nettó Mjódd - Geosilica kl:15-19 Nettó Glerártorgi - Himneskt hnetusmjör, maískex & ginger ale kl:16-18 Nettó Granda - Ragga Nagli kl:15-19 Nettó Hrísalundi - HH hnetusmjör og maískex kl:15-18 Nettó Mjódd - HH hnetusmjör, maískökur & Bai kl:16-18 Nettó Mjódd - Júlía Magnúsdóttir með smakk og kynningu á uppskriftarbók bók sinni Lifðu til fulls kl:16-19 Nettó Mjódd - Guðrún Bergmann
24.
kl:16-19 Nettó Krossmóa Geosilica kl:14-16 Nettó Granda - Ragga Nagli Kl:14-17 Nettó Granda - Voelkel og Derit snakk
25.
Kl:13-17 Nettó Glerártorgi - Hafra Chiagrautur m.Isola möndlumjólk, kanil & turmerik Kl:14-17 Nettó Mjódd - Nakd nibbles Tooty Fruity, Derit snakk & Bai
SEPT
SEPT
KROSSMÓI BORGARNES GLERÁRTORG GRANDI HRÍSALUNDUR MJÓDD
www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss
6
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. september 2016
Þingsályktun Silju um tæknifrjóvganir samþykkt ●●Talið er að um 15 til 20% para þurfi að leita sér aðstoðar vegna ófrjósemi
BREYTING Á DEILISKIPULAGI Dalshverfi I Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst til kynningar eftirtalin deiliskipulagstillaga. Deiliskipulagstillaga, breyting á deiliskipulagi lóðanna Leirdalur 7-37 Deiliskipulagssvæðið er 11.314 m2 og nær yfir lóðirnar 7-37 (oddatölur) við Leirdal. Megin breytingin er að einbýlishúsum á tveimur hæðum er breytt í tvíbýlishús, samtals á 16 lóðum. Tillaga, ásamt fylgigögnum, verður til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 22. september til 3. nóvember 2016. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. nóvember 2016. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ. Reykjanesbæ 21. september 2016.
Skipulagsfulltrúi
Velferðarsvið auglýsir styrki Velferðarsvið Reykjanesbæjar auglýsir styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa skv. 27. gr. laga nr. 59/ 1992 um málefni fatlaðs fólks. Veittir eru styrkir í samræmi við reglur Reykjanesbæjar til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig eru veittir styrkir til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing. Umsóknarfrestur er til 13. október nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Þjónustuveri á Tjarnargötu 12 og eru einnig aðgengileg á vef Reykjanesbæjar. Nánari upplýsingar veita Sigríður Daníelsdóttir (sigridur. danielsdottir@reykjanesbaer.is) og Hrefna Höskuldsdóttir (hrefna.hoskuldsdottir@reykjanesbaer.is).
SJÓNVARP V Í K U R F R É T TA
NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ WWW.VF.IS/VEFTV
Þingsályktun um aukinn stuðning vegna tæknifrjóvgana var samþykkt af Velferðarnefnd Alþingis á dögunum. Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingismaður Framsóknarflokks úr Reykjanesbæ, var fyrsti flutningsmaður hennar. Nefndin hefur nú falið heilbrigðisráðherra að endurskoða reglur um greiðsluþátttöku ríkisins vegna tæknifrjóvungarmeðferða fyrir lok þessa árs og að gætt verið að því að greiðsluþátttaka nái til fyrstu glasfrjóvgunarmeðferðar og sé óháð því hvort pör eða einstaklingar eigi barn fyrir. Silja fékk hugmyndina að málinu vorið 2014 og hafði í framhaldinu samband við stjórn Tilveru, samtaka um ófrjósemi. „Ég átti nokkra fundi með stjórninni og Guðmundi Arasyni lækni, sem rak á þeim tíma læknastofuna Art Medica, sem
veitti þjónustu vegna ófrjósemi. Þau bentu mér á hluti í kerfinu sem þyrfti að laga svo gera mætti það sanngjarnara,“ segir Silja. Greiðsluþátttöku ríkisins var breytt árið 2011 þannig að önnur til fjórða meðferð var niðurgreidd af Sjúkratryggingum Íslands í stað fyrstu til þriðju eins og verið hafði. Eftir breytingarnar 2011 voru færri sem leituðu sér meðferðar vegna ófrjósemi. Silja kveðst eiga von á því að fleiri geti nú leitað meðferðar vegna ófrjósemi og að of mikill kostnaður komi ekki í veg fyrir það. Hún bendir á að frjósemi kvenna á Íslandi fari minnkandi og sé nú komin undir tvö börn á konu. „Að auki er talið að um 15 til 20 prósent para þurfi að leita sér einhvers konar aðstoðar vegna ófrjósemi og sá hópur mun líklega stækka á næstu árum. Það er því þjóðhagslega hagkvæmt að ríkið styðji betur við fólk sem glímir við ófrjósemi. Það skiptir líka máli að fólk hafi kost á að ákveða sjálft
hversu mörg börn það vill eignast, þó svo að það þurfi að nota tæknina til að eignast fjölskyldu. Breytingin sem Velferðarnefnd Alþings samþykkti á dögunum felur það einnig í sér að greiðsluþátttaka sjúkratrygginga verði óháð því hvort pör eða einstaklingar eigi barn fyrir og það þykir mér mikið réttlætis- og sanngirnismál.“ Ekki náðist samþykki um öll atriði þingsályktunar Silju í afgreiðslu þingsins en hún segir það stundum þannig að fara þurfi milliveginn til að ná árangri. Hún ætlar að fylgja öðrum þáttum ályktunarinnar eftir, til dæmis að þær meðferðir verði ekki taldar með, sem ekki fylgi uppsetning á fósturvísum. „Mér finnst einfaldlega ekki sanngjarnt að þær geri það þegar enginn möguleiki er á að þungun verði, það er að ófrjósemissjúklingar missi í raun eina niðurgreidda meðferð. Slíkt gerist einstaka sinnum þegar egg frjóvgast alls ekki eða eru ekki nógu góð til uppsetningar.“ Þá segir Silja einnig þurfa að endurskoða kostnaðarþátttöku ríkisins varðandi krónutölur, þar sem ekki sé samræmi og milli greiðsluþátttöku sjúkratrygginga og verðskrár einkastofunnar IVF Klinik.
Afþreying:
BÍÐUR SPENNT EFTIR NÆSTU BÓK
ÞORGRÍMS ÞRÁINSSONAR Díana Hilmarsdóttir tók á dögunum við forstöðu Bjargarinnar, Geðræktar-
miðstöðvar Suðurnesja. Áður hafði hún starfað þar í tvö ár. Díana segir starfið mjög gefandi en jafnframt krefjandi. Hún er með BA-gráðu í félagsráðgjöf og er langt komin með nám í meðferðarmenntun sem nefnist PMTO (Parent Management Training) og er aðferð fyrir uppalendur sem miðar að því að draga úr hegðunarörðugleikum barna og unglinga. Díana ólst upp í Ólafsvík til 9 ára aldurs, en flutti þá í Garðabæinn. Síðan árið 2000 hefur hún búið í Keflavík. Eiginmaður hennar er Önundur Jónasson úr Keflavík. Saman eiga þau þrjú börn, Kormák Andra 19 ára, Emelíu Nótt 13 ára og Kristófer Mána 10 ára. Fjölskyldan nýtir sumrin til ferðalaga og fer árlega í réttir vestur í Dali á heimaslóðir tengdamóður Díönu. Díana heldur mikið upp á bækur frænda síns, Þorgríms Þráinssonar og las nýlega bók eftir annan frænda sinn, Heiðar Jónsson snyrti.
Bókin
Mér finnst mjög gaman að lesa en les mis mikið eftir árstíma, les meira á haustin og veturna. Ég les alls konar bækur og er hrifnust af glæpasögum og ástarsögum. Bækur eftir Arnald Indriðason finnst mér góðar, las síðast Mýrina. Ég hef svo auðvitað lesið allar bækurnar eftir frænda minn Þorgrím Þráinsson, finnst þær allar svo skemmtilegar og bíð spennt eftir næstu bók. Það sem ég las eða gluggaði í síðast var Hámarksárangur eftir Brian Tracy, Litgreining og stíll eftir annan frænda minn hann Heiðar Jónsson snyrti og Lág Kolvetna Lífstíllinn eftir Gunnar Má. Ég er nýskriðin úr veikindum, fór á bókasafnið og tók mér slatta af auðlesnum bókum úr Rauðu seríunni og get alveg gleymt mér við að lesa þær.
Tónlistin
Ég elska að hlusta á tónlist enda kemur hún mér alltaf í gott skap. Ég hlusta alltaf á tónlist í bílnum þegar ég er að keyra, er alltaf með á K100,5 og hækka vel og syng með þrátt fyrir að
vera gjörsamlega laglaus. Manni finnst maður syngja svo vel þegar maður syngur með lögunum. Þegar ég er að þrífa heima þá finnst mér ekkert skemmtilegra en að þrífa með góða tónlist í græjunum. Ég er alæta á tónlist nema ég er ekki hrifin af death metal og of miklu country. Ég er með nokkra playlista á Spotify og hlusta á allt frá Flo Rida og Rihönnu til Coldplay og Adele, Ed Sheeran er líka í uppáhaldi hjá mér, það fer allt eftir því hvað ég er að gera; þrífa, í ræktinni, vinna, skemmta mér eða slaka á.
Sjónvarpsþátturinn
Ég hef alltaf haft lúmskt gaman af breskum þáttum og þá helst sakamálaþáttum. Danska sakamálaþáttaröðin Dichte fannst mér mjög skemmtileg sem og The Brigde danska útgáfan ekki sú ameríska. Þættirnir Innsæi, Glæpahneigð, Chasing Life, Rosewood, Queen of the South, American Gothic, Black ish, Criminal Minds, Madam Secretary eru þættir sem mér finnst góðir sem og margir fleiri. Ég fór seint að horfa á Game of Thrones, ég og maðurinn minn horfðum á þrjár eða fjórar þáttaraðir í einu, tókum 1 til 2 og stundum 3 þætti á kvöldi. Við kolféllum fyrir þessum þáttum og bíðum spennt eftir meiru.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
8
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. september 2016
BRAGI SÖNG Í BEINNI Á BBC ●●Fólkið í kirkjukórnum í Sandgerði hvatti Braga á sínum tíma til að fara í söngnám
Óperusöngvarinn Bragi Jónsson úr Sandgerði kom fram á lokatónleikum tónlistarhátíðarinnar BBC Proms sem sýndir voru í beinni útsendingu í breska ríkissjónvarpinu og víðar um þar síðustu helgi. BBC Proms stendur yfir í tvo mánuði og fer fram í Royal Albert Hall og á dagskránni er fjölbreytt klassísk tónlist. Sinfóníuhljómsveit Íslands kom fram á hátíðinni árið 2014 og í fyrra var orgelkonsert Jóns Leifs leikinn. Bragi segir það hafa verið svolítið taugatrekkjandi að syngja í beinni útsendingu á BBC en að sama skapi ánægjulegt hve vel gekk. „Ég var ekki neitt sviðsdýr áður en ég byrjaði í söng en svo allt í einu þurfti ég að fara að syngja fyrir framan fólk og er orðinn nokkuð sjóaður í því. En tilhugsunin um að syngja í beinni var svolítið stressandi,“ segir hann. Verkið sem Bragi söng í heitir Serenade to Music og er eftir Ralph Vaughan Williams. Hann segir boðið um að syngja á tónleikunum hafa komið nokkuð óvænt en sú sem sá um að finna söngvara í verkið hafði unnið með Braga við óperu árið 2014. Allir söngvararnir sungu stutt sóló og segir Bragi ómetanlegt að geta bætt tónleikunum á ferilskránna. „Margir þeirra söngvara sem ég söng með eru Bretar og ég fann hjá þeim hversu merkilegt það var að fá boð um að taka þátt. Ég hafði ekki gert mér fyllilega grein fyrir því áður. Það var því mikill heiður að fá að syngja á þessum viðburði í Royal Albert Hall, hinum megin við götuna þar sem ég var í skóla.“ Byrjaði 11 ára í kirkjukór
Bragi ólst upp í Garði í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjarsýslu. Þar gekk hann í skóla í Lundi í Öxarfirði og byrjaði 6 ára gamall í tónlistarnámi og lærði fyrst á trompet og síðar á píanó. Þegar hann var 13 ára gamall flutti fjölskyldan til Sandgerðis og þar hélt Bragi píanónáminu áfram en áhuginn dvínaði fljótt og hætti hann námi 15 ára gamall. Fyrsta reynsla Braga af söng var í kirkjukórnum í Kelduhverfi þegar hann var 11 ára. Braga líkaði strax vel í kórnum og söng með honum þangað til hann flutti suður. Eftir að fjölskyldan flutti til Sandgerðis byrjaði mamma hans að syngja með kirkjukórnum þar og ein jólin nokkrum árum seinna bað hún Braga að syngja með. „Ég mætti á æfingu og byrjaði að syngja sem tenór eins og ég hafði gert í sveitinni en karlarnir í kórnum voru fljótir að benda mömmu minni á það að ég væri enginn tenór heldur ætti ég frekar heima í bassanum. Síðan var það um jólin 2005 að kórfélagar í kirkjukórnum í Sandgerði fóru að hvetja mig til að fara nú bara að læra söng,“ segir Bragi sem var nú ekkert á því en skráði sig einhverra hluta vegna í inntökuprufur fyrir Söngskólann í Reykjavík. „Þangað mætti ég án þess að vita út í hvað ég væri að fara, fann lag í söngbók sem ég kunni og söng það fyrir fólkið og var tekinn inn. Eftir það má segja að eitt hafi leitt af öðru. Skömmu eftir að maður byrjaði í Söngskólanum var maður kominn í söngferð til
Rússlands og svo stuttu seinna orðinn meðlimur í Kór Íslensku Óperunnar.“ Eftir að Bragi lauk námi frá Söngskólanum lá leiðin í meistaranám við Royal College of Music í London og þaðan útskrifaðist hann sumarið 2013.
Söngelsk fjölskylda á faraldsfæti
Í dag býr Bragi í Grafarvogi í Reykjavík með sambýliskonu sinni, Dísellu Lárusdóttur, söngkonu. Þau eiga tvo syni, þá Bjart Lárus 6 ára og Jökul Orra, 18 mánaða. Þau fjölskyldan eru mikið á faraldsfæti því Dísella syngur mikið erlendis og er þar jafnvel í nokkra mánuði í senn og því eru þau oftar en ekki með annan fótinn í útlöndum. Næstu jólum og áramótum ætla þau að verja í New York þar sem Dísella mun syngja við Metropolitan Óperuna þar í borg. Samhliða söngnum og söngnámi hefur Bragi starfað hjá Byko. Hann byrjaði að vinna hjá Byko í Reykjanesbæ árið 2003 með skóla, bæði framhalds- og háskólanámi og hefur frá árinu 2007 starfað á vörustjórnarsviði fyrirtækisins. „Þegar ég var í London í námi og svo eitt ár í New York vann ég í fjarvinnu fyrir Byko og það var svo sannarlega mikils virði,“ segir hann. Hér á Íslandi syngur Bragi oft í jarðarförum með karlahópnum Voces Masculorum og segir að þrátt fyrir að tilefnin séu ekki gleðileg sé alltaf jafn gott að stökkva úr amstrinu í Byko og syngja fallega tónlist með félögum sínum.
Bragi við auglýsingu á BBC Proms og bendir á nafn sitt. Proms er tveggja mánaða sumarhátíð í Royal Albert Hall þar sem boðið er upp á fjölbreytta klassíska tónlist, allt frá gömlum og vel þekktum verkum til frumflutnings á nýjum. Miðaverði er stillt í hóf svo sem flestir geti kynnst og upplifað klassíska tónlist. Sem dæmi um fjölbreytileika hátíðarinnar var haldið sérstakt David Bowie Prom í ár og auk þess eru haldin raftónlistarprom í Royal Albert Hall og rokk/popp prom í Hyde Park. Lokakvöldinu, sem Bragi kom fram á, er fagnað á fimm stöðum samtímis, sem allir tengjast í sjónvarpinu og á risaskjám.
Bragi með fjölskyldunni. Eiginkona hans er Dísella Lárusdóttir söngkona. Þau eiga tvo syni, Bjart Lárus 6 ára og Jökul Orra, 18 mánaða.
Bragi með Dísellu Lárusdóttur, eiginkonu sinni. Myndin var tekin fyrir utan Royal Albert Hall þar sem Bragi söng á lokatónleikum BBC Proms á dögunum.
Ég mætti á æfingu og byrjaði að syngja sem tenór eins og ég hafði gert í sveitinni en karlarnir í kórnum voru fljótir að benda mömmu minni á það að ég væri enginn tenór heldur ætti ég frekar heima í bassanum
Orkuldsryykkurlkauurs Líka ti
kr. 250 ml
59
kr. 400 g
69
kr. 420 g
69
kr. 400 g
Orkudrykkur 250 ml, 2 teg.
Kjúklingabaunir 400 g
Bakaðar baunir 420 g
Tómatar 400 g, 2 tegundir
69
2
brauð í pakka
159 kr. pk.
Hvítlauksbrauð 2 stk. í pakka
98
Heildós
kr. 1 l
Trönuberjasafi, 1 l Eplasafi, 1 l
kr. 100 g
69
159 kr. 820 g
298
Rískökur 100 g
Ferskjur 820 g
Múslí 750 g
129 kr. 24 stk.
129
kr. 750 g
298 kr. 750 g
Kornflögur 750 g
Bökunarpappír 24 arkir
198 kr. stk.
Ostapizza Frosin, 300 g
kr. pk.
kr. 200 stk.
69
129 kr. 500 ml
159 kr. 500 ml
198
Bómullarskífur 120 stk.
Eyrnapinnar 200 stk. í boxi
Uppþvottalögur 500 ml
Handsápa 500 ml
Eldhúsrúllur 4 rúllur í pakka
kr. pk.
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 25. september eða meðan birgðir endast
1L
10
VÍKURFRÉTTIR
LAUS STÖRF ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ AKURSKÓLA HÁALEITISSKÓLI
Starf við þjónustu Forfallakennari
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf eða beint á Ráðningavefinn https://reykjanesbaer.hcm.is/ storf/. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
Páll Valur hlaut Barnaréttindaverðlaunin Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar úr Grindavík, hlaut síðasta föstudag Barnaréttindaverðlaun ungmennaráða UNICEF á Íslandi, Barnaheilla og ráðgjafarhóps umboðsmanns barna. Verðlaunin falla í hlut þess þingmanns sem ungmennunum þykir hafa staðið sig best við að vekja athygli á og berjast fyrir réttindum barna á Alþingi á ári hverju. Verðlaunin verða veitt árlega og voru afhent í fyrsta skipti í dag. Í rökstuðningi ungmennaráðanna kemur fram að Páll skari fram úr öðrum þingmönnum við að vekja athygli á hagsmunum barna á Íslandi, ekki síst þeirra barna sem standa höllum fæti í samfélaginu. Hann hafi án afláts sett upp „barnagleraugun“ í þeim tilgangi að berjast fyrir réttindum barna á Íslandi. „Barnagleraugun eru tæki sem talsmenn barna á Alþingi eiga að nota til þess að sjá heiminn frá sjónarhorni barns,“ segir í rökstuðningi ungmennaráðanna. Ungmennaráðin benda á að Páll Valur Björnsson hafi í störfum sínum á Alþingi lagt mikið af mörkum til réttinda-
VIÐBURÐIR BLÓMAHAF - LISTAMANNASPJALL Elinrós Blomquist Eyjólfsdóttir listmálari tekur þátt í listamannaspjalli um sýningu sína Blómahaf í Bíósal Duus Safnahúsa sunnudaginn 25. september kl. 15:00. Allir velkomnir.
STEFNUMÓT 2016 Frisbígolfmót fer fram á rómantíska svæðinu (milli Vesturgötu og Aðalgötu) 24. september kl. 11:00. Para- og einstaklingskeppni.
5.390
TY2007X Vinnuljóskastari ECO perur 2x400W tvöfaldur á fæti
6.590
TY2007K Vinnuljóskastari m handf 400W ECO pera, 1,8m snúra
T38 Vinnuljós
3.290 5.590
SHA-2625 Vinnuljóskastari Rone 28W m. innst. blár. 1,8m snúra
6.990
Rafmagnshitablásari 5Kw 3 fasa
12.830
Rafmagnshitablásari 9Kw 3 fasa
17.990
SHA-8083 3x36W Halogen
16.990
Kletthálsi 7, Reykjavík Fuglavík 18, Reykjanesbæ
„Þetta eru krakkarnir okkar og við viljum að þeim vegni sem best“ ●●Netið er nýtt verkefni í Grindavík sem miðar að því að styðja við ungmenni sem hverfa frá námi
Ljós og hiti TY2007W Vinnuljóskastari á telescope fæti 400W ECO pera
mála barna. Hann var fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu sem samþykkt var í vor, um að 20. nóvember, alþjóðlegur dagur barnsins, verði helgaður fræðslu um réttindi barna í grunnskólum landsins. Hann hefur beitt sér fyrir því að grunnskólanám verði raunverulega gjaldfrjálst, bent á aðstöðuleysi á Litla-Hrauni og að börn geti ekki heimsótt feður sína sem þar eru vistaðir, lagt fram fyrirspurnir til ráðherra um málefni barna, til dæmis um börn með ADHD og skyldar raskanir, barist gegn efnislegum skorti meðal barna og svo mætti lengi telja. Auk þess hefur hann verið óþreytandi við að tala fyrir mannréttindum barna í ræðum sínum á Alþingi, skrifað pistla og greinar og verið sérlega duglegur við að þiggja boð á viðburði, fundi og ráðstefnur þar sem vakin er athygli á réttindum barna. Páll Valur hefur síðan árið 2014 verið einn af sex talsmönnum barna á Alþingi.
Barnagleraugun eru tæki sem talsmenn barna á Alþingi eiga að nota til þess að sjá heiminn frá sjónarhorni barns
HEILSU- OG FORVARNARVIKA Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar verður haldin 3. - 9. október. Þátttökutilkynningar berist á netfangið heilsuvika@ reykjanesbaer.is fyrir 23. september. NÝTT Á NESVÖLLUM - JÓGA Boðið er upp á jóga alla miðvikudaga kl. 10:00. Verið velkomin.
fimmtudagur 22. september 2016
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Auglýsingasíminn er
421 0001
Grindavíkurbær á í samstarfi við ýmis fyrirtæki í bæjarfélaginu og við Fjölbrautaskóla Suðurnesja um að útvega 16 til 18 ára unglingum atvinnu kjósi þau að hverfa frá námi. Verkefnið kallast Netið og hefur undirbúningur staðið yfir í eitt ár. Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs hjá Grindavíkurbæ, segir þá nemendur sem luku námi síðasta vor vera nokkurs konar tilraunadýr verkefnisins. „Nú eru þau komin í framhaldsskóla og við fylgjum þeim eftir og veitum stuðning ef á þarf á að halda. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er með ýmis mjög góð úrræði og verkefnið okkar er viðbót við þau,“ segir hann. Strax er farið Þorsteinn Gunn- að reyna á Netið og arsson, sviðsstjóri segir Þorsteinn það frístunda- og hafa sýnt sig að það menningarsviðs. virki. Sjávarútvegs- og þjónustufyrirtæki og verkstæði í Grindavík taka þátt í verkefninu og segir Þorsteinn einkar ánægjulegt hve vel forsvarsmenn þeirra tóku í hugmyndina. Gerður hefur verið samningur við fyrirtækin og greiðir bærinn hluta af launum unga fólksins. „Oft hefur unga fólkið frumkvæði að því að fara út á vinnumarkaðinn og það er hið besta mál en við höfum líka dæmi um fólk sem hefur ekki haft það frumkvæði eftir að hafa hætt námi og því lent á milli. Það eru þessir krakkar sem við viljum hjálpa. Þess vegna heitir verkefnið Netið því við viljum þétta netið í kringum þau.“
Frá fundi sem haldinn var síðasta vor með 10. bekkingum og foreldrum þeirra.
Þorsteinn segir að bæjaryfirvöldum í Grindavík hafi verið aldurshópurinn 16 til 18 ára hugleikinn og þá sér í lagi sú viðhorfsbreyting sem verður þegar þau hefja nám í framhaldsskóla. Haldinn var fundur með foreldrum 10. bekkinga síðasta vor þar sem málin voru rædd, þar á meðal sú staðreynd að góður árangur hafi náðst við að minnka neyslu áfengis meðal grunnskólanemenda en að nokkrum mánuðum síðar séu þau komin í framhaldsskóla og þá virðast viðhorfin til þess breytast. „Þarna náðum við sambandi við nemendur og foreldra þeirra áður en þau fóru úr grunnskólanum og í skóla í öðrum bæjarfélögum. Það kom skýrt fram að foreldrar vilja meiri stuðning við að fylgja börnum sínum eftir á þessum aldri.“ Þorsteinn segir gott að unga fólkið viti að það hafi
traust bakland í sinni heimabyggð ef á þurfi að halda. „Það má segja að með verkefninu séum við að opna faðminn fyrir þessa krakka. Ef þau þurfa á því að halda erum við tilbúin að taka utan um þau og hjálpa eins og við mögulega getum. Okkur finnst mikilvægt að ná utan um þennan aldur áður en þau verða sjálfráða því þetta eru krakkarnir okkar og við viljum að þeim vegni sem best. Því viljum við gera allt til að efla þau í því sem þau taka sér fyrir hendur.“ Grindavíkurbær hefur kynnt verkefnið fyrir skólastjórnendum á Suðurnesjum og segir Þorsteinn þá hafa sýnt því mikinn áhuga. Þá var það einnig kynnt á Félagsráðgjafaþingi í febrúar síðastliðnum. dagnyhulda@vf.is
HVETJUM STELPURNAR OKKAR TIL SIGURS
1. DEILD KVENNA
ÚRSLITALEIKUR UM SÆTI Í PEPSÍ-DEILD
HAUKAR - KEFLAVÍK ÁSVELLIR 23. SEPTEMBER KL. 19:15
12
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. september 2016
FERTUGUR FJÖLBRAUTASKÓLI
Það verður mikið um dýrðir hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja næsta laugardag, 24. september, en þá verður 40 ára afmæli skólans fagnað með opnu húsi. Boðið verður upp á skemmtilega tónleika þar sem ýmsir fyrrum nemendur skólans koma fram. Skólinn varð til þegar Iðnskóli Suðurnesja, Framhaldsdeild Gagnfræðaskólans og Öldungadeild Gagnfræðaskólans í Keflavík runnu saman í eitt. Við stofnun voru nemendur um 250 talsins og húsnæði skólans um 1000 fermetrar. Í dag eru nemendur yfir þúsund og húsnæðið um 9000 fermetrar. Víkurfréttir kíktu í heimsókn í skólann á dögunum.
Ægir Sigurðsson, jarðfræðikennari við FS.
Guðlaug Pálsdóttir, aðstoðarskólameistari FS.
Hefur kennt við FS frá upphafi
Nemendurnir eru yndislegir
„Ekki gott að muna ekkert,“ segir Ægir Sigurðsson kennari
■■Ægir Sigurðsson, jarðfræðikennari við FS, hefur kennt við skólann frá stofnun árið 1976. Áður hafði hann kennt annars staðar í fjögur til fimm svo ferillinn er orðinn langur. Hann kveðst ekki hafa átt von á því þegar hann byrjaði að kenna við skólann að ná svo háum starfsaldri þar og viðurkennir að verða oft þreyttur á kennslunni. „En svo kemur að því sem margir segjast vera kennarar út á, það er að segja júní, júlí og ágúst. Sumarfríið gerir það að verkum að maður endurnýjar sig og er jafnvel farinn að hlakka til að mæta aftur að hausti.“ Á áratugunum fjórum hjá FS hefur Ægir verið kennari, áfangastjóri, aðstoðarskólameistari og skólameistari. Hann segir nemendahópinn hafa verið öðruvísi á árum áður því þá þurftu nemendur að uppfylla strangari námslegar kröfur en í dag til að fá inngöngu í skólann. „Nú erum með komin með allt litrófið inn í skólann og af því verða áherslubreytingar,“ segir hann. Tæknin hefur líka haft áhrif á kennsluna í tímans rás og segir Ægir að hann hefði mátt nýta sér hana meira við kennsluna. „Ég held að skólakerfið hafi ekki alveg áttað sig á þessari tækni. Mín kynslóð lærði ýmislegt utanbókar en núna flétta nemendur þessu bara upp og þurfa mun minna að muna. Ég er nú nógu gamall til að halda því fram að það sé ekki gott að muna ekkert en þau hafa yfir að ráða óhemju vitneskju í gegnum þessi snjalltæki og það er gott.“
■■Guðlaug Pálsdóttir, aðstoðarskólameistari FS, hefur starfað við skólann í 20 ár, fyrst sem kennari og sem stjórnandi síðastliðin 11 ár. „Nemendurnir eru yndislegir og starfsfólkið afbragðsgott,“ segir Guðlaug sem enn kennir aðeins ásamt því að vera aðstoðarskólameistari. „Kennslan blundar alltaf í mér enda er hún alveg svakalega skemmtileg.“ Nemendur FS eru rúmlega þúsund fyrir utan yfir eitt hundrað grunnskólanemendur sem sækja þangað valáfanga. Guðlaug segir skólann mikilvægan samfélaginu á Suðurnesjum og mikilvægt fyrir nemendur að þurfa ekki að sækja annað eftir námi, enda sé í boði mjög góð menntun í FS.
Margrét Guðrún og Kolbrún Júlía í eðlisfræði að mæla hraða kúlu. Með þeim á myndinni er Ásgeir Ólafur Pétursson, eðlisfræðikennari.
Sumarrós Sigurðardóttir, dönskukennari við FS.
Töflutússar gott agatæki ■■Sumarrós Sigurðardóttir, eða Rósa dönskukennari eins og hún er jafnan kölluð af nemendum FS, hefur kennt við skólann í rúmlega 36 ár. Hún segir að nemendurnir hafi ekki mikið hafa breyst á þessum tíma, heldur frekar hún sjálf. „Þegar ég byrjaði var ég náttúrulega bara ungur kennari. En samband mitt við nemendur er öðruvísi í dag því að ég er þroskaðari. Þau eru alltaf jafn indæl og hlýðin,“ segir Rósa sem þekkt er fyrir óhefðbundnar aðferðir við að halda uppi aga í tímum; að kasta töflutússlit í átt til nemenda sem ekki halda sér við efnið. Hún segir aðferðina virka vel. „Ég segi nemendum alltaf í leiðinni að ég hafi verið í handboltalandsliðinu sem vann Norðurlandameistaratitilinn á Melavellinum árið 1964 og þau hreyfa engum mótbárum við því.“ Aðspurð hvernig gangi að kenna mis áhugasömum ungmennum dönsku segir hún það ekki mikið mál enda beri hún þau í gegnum námið og allir læri vel.
Raungreinarnar skemmtilegastar ■■Þær Margrét Guðrún Svavarsdóttir úr Sandgerði og Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman úr Reykjanesbæ eru nú á þriðja og síðasta ári sínu við FS. Gamla kerfið, sem miðaðist við að nemendur lykju námi á fjórum árum, var enn við lýði þegar þær hófu nám en þær völdu sér að ljúka náminu á hraðferð. Þær eru sammála um að það sé svolítið strembið að taka námið á þremur árum. „Við erum búnar að ljúka sjö áföngum á hverri önn sem er frekar mikið. Yfirleitt tekur fólk fimm til sex áfanga,“ segir Kolbrún. „Það er alltaf fullur skóladagur og aldrei eyður á milli tíma. Eftir skóla fer maður svo strax heim að læra og fær því ekki eins mikið frelsi og þeir sem taka námið á aðeins lengri tíma,“ segir Margrét. Raungreinarnar eru í mestu uppáhaldi hjá Margréti og Kolbrúnu og segir Margrét erfitt að velja á milli stærðfræðinnar og efnafræðinnar. „Ég elska stærðfræði og efnafræðin og eðlisfræðin tengjast henni að miklu leyti þannig að það eru þessi þrjú fög sem mér finnst mjög skemmtileg,“ segir Kolbrún. Í framtíðinni ætla þær að halda áfram námi við eitthvað tengt raungreinum en eru ekki alveg búnar að ákveða sig. „Ég er búin að vera alveg ákveðin í því í fimm ár að verða tannlæknir en núna þegar er að koma því veit ég ekkert hvað ég vil gera. Það verður mjög líklega eitthvað á sviði raunvísinda, til dæmis læknir,“ segir Kolbrún.
fimmtudagur 22. september 2016
13
VÍKURFRÉTTIR
Alltaf gaman að afhenda leikföngin á leikskóla Smíðasmiðjan er skemmtilegt verkefni við FS þar sem nemendur smíða leikföng og gefa á leikskóla á Suðurnesjum. Ágúst Eiríksson, kennari við málmiðnaðardeild, segir það alltaf skemmtilega stund að afhenda leikföngin en þá mæta allir leikfangasmiðirnir og hitta leikskólabörnin. „Þá er oft bökuð skúffukaka og haldin veisla. Nemendur hafa haft mjög gaman af því að gefa það sem þeir hafa smíðað,“ segir hann. Hóparnir hafa smíðað gröfur, bíla, hlaupahjól og fleira. Að undanförnu hefur mikið verið rætt um skort á iðnmenntuðu fólki hér á landi og segir Ágúst fag eins og Smíðasmiðjan hvetja nemendur til iðnnáms. „Þau sem ég kenndi í smíðasmiðjunni í fyrra hafa í ár skilað sér til mín í suðuáfanga. Skólinn hefur upp á margs konar nám að bjóða og þau sækja mörg hver í iðnnám og það er mjög jákvætt.“ Aðspurður um kynjahlutföllin í iðnnámi í tré,- málm,- og járnsmíði, segir Ágúst þau enn ójöfn. „Allt of fáar stelpur koma í þessa áfanga hjá okkur og ég væri til í að sjá þær miklu fleiri. Það hafa komið ein og tvær á önn og þær hafa verið mjög fljótar að ná þessu.“
Ágúst Eiríksson, kennari við málmiðnaðardeild.
Smíða einn sumarbústað á ári Nemendur Smíðasmiðjunnar með nokkur þeirra leikfanga sem þeir hafa smíðað. Þau verða svo afhent leikskólum á næstunni.
Leikfangasmíðin er mikil nákvæmnisvinna.
■■Fyrir utan FS standa tveir sumarbústaðir, annar í byggingu og hinn tilbúinn. Bústaðina smíðuðu nemendur í húsasmíði og bíður sá tilbúni þess að verða sóttur af eiganda sínum. Bústaðina smíða nemendur á þriðju önn í húsasmíði. Að sögn Gunnars Valdimarssonar, fagstjóra í tréiðnum, hafa nemendur byggt eins bústaði árlega frá árinu 2004. „Við erum haustönnina að reisa húsið og fram undir jólapróf erum við að ljúka við smíði utandyra og langt komnir inni. Á vorönninni fara þeir út að smíða til að rýmka til í tækjasalnum þegar margir eru þar inni að vinna þannig að við reynum að haga þessu þannig að vinnan sé sem lengst komin á vorin þegar við förum í sumarfrí.“ Ríkiskaup sjá svo um að auglýsa húsin og selja þau hæstbjóðanda. „Hingað til hef ég ekki heyrt neinar óánægjuraddir frá þeim sem hafa keypt af okkur,“ segir Gunnar að lokum.
Nemendur í áfanganum Timburhús og útveggjaklæðningar smíða sumarbústaðina sem seldir eru hæstbjóðanda.
FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURNESJA 40 ÁRA 1976-2016
Okkur í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þætti vænt um að sjá þig á meðal gesta þegar við fögnum 40 ára afmæli skólans, laugardaginn 24. september nk. Í tilefni afmælisins verður opið hús í skólanum milli 13:00 og 16:30 þar sem boðið verður upp á skemmtilega dagskrá og veitingar. Stórsveit Suðurnesja leikur vel valin lög.
HÁTÍÐARDAGSKRÁ
HEFST Á SAL SKÓLANS KL. 14:00 OG STENDUR TIL KL. 14:30. Að henni lokinni verða tónleikar til kl. 16:30 þar sem fram koma m.a. • Davíð Ólafsson, Stefán og Helgi sem skipa duett.is • Hljómsveitin Klassart • Valdimar Guðmundsson • Drengjabandið • Dagný Halla Allir velkomnir! Við hvetjum sérstaklega gamla nemendur til að safnast saman og eiga góða stund. Skólameistari og starfsfólk Fjölbrautaskóla Suðurnesja
14
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. september 2016
Hvernig alþjóðafjármálastofnanir geta aukið fjárfestingu í hreinni orku ●●Ný bók eftir Hilmar Þór Hilmarsson kemur út í New York í haust ■■Ný bók eftir Njarðvíkinginn Dr. Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Viðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri, kemur út í New York nú í haust. Bókin ber titilinn International Financial Institutions, Climate Change and the Urgency to Facilitate Clean Energy Investment in Developing and Emerging Market Economies. Í bókinni fjallar Hilmar um hvernig alþjóðafjármálastofnanir (til dæmis Alþjóðabankinn og svæðabankar) geta stuðlað að aukinni fjárfestingu í hreinni orku í nýmarkaðs- og þróunarríkjum. Á næstu árum og áratugum mun eftirspurn eftir orku að öllum líkindum aukast mest í nýmarkaðsog þróunarríkjum. Hreinar orkulindir eru einnig að mestu staðsettar í þessum löndum. Framkvæmdir við nýtingu á hreinum orkulindum, til dæmis jarvarma- og vatnsfallsvirkjanir eru fjármagnsfrekar og hafa langan endurgreiðslutíma. Áhætta í nýmarkaðs- og þróunarlöndum, þar á meðal stjórnmálaáhætta, er oft mikil og alþjóðafjármálastofnanir geta stuðlað að aukinni fjárfestingu í samvinnu við einkageirann og hið opinbera með lánveitingum og styrkjum, en enn frekar með tryggingum og ábyrgðum, sem þær hafa hingað til verið tregar að veita. Þrátt fyrir þá ógn sem steðjar að heimsbyggðinni í loftslagsmálum, og í orku- og umhverfismálum, hafa alþjóðafjármálastofnanir
lítið fjárfest í hreinni orku enn sem komið er. Í bókinni fjallar Hilmar um hvernig alþjóðafjármálastofnanir geta beitt sínum fjármálatækjum og margfaldað hlut sinn í verkefnum á sviði hreinnar orku á næstu árum og áratugum. Bókina skrifaði Hilmar að mestu leyti þegar hann var gestaprófessor við Cornell University í Bandaríkjunum haustið 2015.
Á næstu árum og áratugum mun eftirspurn eftir orku að öllum líkindum aukast mest í nýmarkaðs- og þróunarríkjum
Um 65 þúsund gestir heimsóttu Garðskagavita og Reykjanesvita í ágúst síðastliðnum. Talning ferðamanna á stöðunum hófst nú í ár.
Yfir 1300 gestir daglega í Garðskagavita í ágúst ■■Um 65 þúsund manns heimsóttu Garðskagavita og Reykjanesvita í ágúst síðastliðnum samkvæmt talningum Gyðu Þórhallsdóttur, doktorsnema við Háskóla Íslands, fyrir Stjórnstöð ferðamála. Samkvæmt talningunni heimsóttu 43 þúsund manns Garðskagavita í ágúst síðastliðnum sem eru að meðaltali 1390 á dag. Um 22 þúsund gestir heimsóttu Reykjanesvita í ágúst eða 710 á dag, að meðaltali. Talning ferðamanna á þessum stöðum hófst í ár en hún fer fram á 70 stöðum um land allt. Reykjanesskaginn er í dag svokallaður Geopark eða jarðvangur og er hluti af verndaráætlun UNESCO eða UNESCO Global Geopark. Reykjanes fékk formlega vottun sem Geopark á þrettándu haustráðstefnu European Geoparks Network í Rokua Geopark í Finnlandi í september 2015. Reykjanes Geopark er annað svæðið á Íslandi til að hljóta þessa vottun en
Katla Geopark hlaut hana árið 2011. Reykjanes Geopark er jafnframt 66. svæðið í Evrópu sem hlýtur vottunina. Töluverðar framkvæmdir eru framundan á Reykjanesi til að mæta auknum fjölda ferðamanna, unnið er að bílastæði við Reykjanesvita og Brimketil auk palla við síðarnefnda staðinn og lagfæring vegstæðis að Gunnuhver. Þá verða kynntar hugmyndir um þjónustuhús við Reykjanesvita á næstu vikum. Sú framkvæmd og reksturinn þar verður í höndum einkaaðila. Framkvæmdirnar eru fjármagnaðar með styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, frá HS Orku og Bláa Lóninu. Auk þess leggur framkvæmdasjóður Reykjanes Geopark til mótframlag en í hann greiða allir aðilar að jarðvanginum.
Félagsmenn Eflingar, Hlífar, VSFK og Stétt Vest
Tökum vel á móti Gallup! Við leitum til félagsmanna eftir upplýsingum og viðhorfum
Mótum stefnuna saman! Efling, Hlíf, VSFK og Stétt Vest
16
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. september 2016
Grænmetisveisla í Grindavík ■■Krakkarnir á leikskólanum Króki í Grindavík settu í vor niður grænmeti í skólagarðana sem komið var á fót við Stakkavík. Sprettan í sumar var góð og á dögunum fóru krakkarnir og tóku upp grænmetið sitt. Þetta var mikið upplifun fyrir börnin eins og sjá má á myndunum sem birtust á vef Grindavíkurbæjar. Krakkarnir fengu svo lánað kar hjá Stakkavík sem keyrði uppskeruna upp að dyrum. Það sem ekki var borðað bauðst börnunum að taka með sér heim og var það vel þegið. Tæmdist karið á tveimur klukkustundum.
Vel sóttur fundur um innanbæjarakstur á mótorkrosshjólum
SKÓLAMÖTUNEYTI AKURSKÓLA Skólamatur auglýsir eftir starfsfólki í skólamötuneyti sitt í Akurskóla í Reykjanesbæ. Um er að ræða starf frá kl. 9-14 alla virka daga. Starfið fellst í undirbúningi, lokaeldun máltíða, framreiðslu og frágangi.
■■Ríflega þrjátíu manns sóttu opinn fund um innanbæjarakstur ungmenna á motorkrosshjólum sem fram fór í Garði nýverið, en nokkuð hefur verið kvartað yfir slíkum akstri í sumar. Ungmennin sjálf og foreldrar þeirra mættu öll ásamt fulltrúum frá lögreglu, AÍFS (Akstursíþróttafélagi Suðurnesja), Sveitarfélaginu Garði ásamt Íslandsmeistara í mótorkross. „En tilfinnanlega vantaði fulltrúa íbúa sem orðið hafa fyrir ónæði af slíkum akstri, en þeirra sjónarmið vantaði alveg inn á fundinn,“ segir í frétt á vef Sveitarfélagsins Garðs. Á fundinum var farið yfir ýmis mál tengd þeirri keppnisíþrótt sem mótorkross-akstur er; skráningar, æfingaaðstöðu, ökuréttindi og annað. Niðurstöður fundarins voru helstar að áhugamenn um motorkross-íþróttina og foreldrar ætla að funda í framhaldinu og koma skipulagi á ástundun íþróttarinnar og funda síðar með umhverfisstjórum Garðs og Sandgerðis um framtíðar æfingasvæði fyrir slíka iðkun.
Fyrirspurnir og umsóknir sendist á fanny@skolamatur.is
Sími 420 2500 I skolamatur@skolamatur.is skolamatur.is
Hollt, gott og heimilislegt
ATVINNA
SVIÐSSTJÓRI FRÍSTUNDA- OG MENNINGARSVIÐS HJÁ GRINDAVÍKURBÆ Grindavíkurbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í starf sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu, reynslu og áhuga á íþrótta- og frístundamálum, forvörnum og menningu. Leitum að aðila sem hefur ríka skipulagshæfni og getu til að stjórna breytingum ásamt hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á einfaldan hátt. Karlar jafnt sem konur eru hvött til þess að sækja um starfið.
Kvenfélag Grindavíkur færði Víðihlíð gjafir ■■Félagar í Kvenfélagi Grindavíkur færðu hjúkrunarheimilinu Víðihlíð ýmsar gjafir til nota í stólaleikfimi. Við afhendingu gjafanna var haldið kaffisamsæti og farið í létta leiki og gjafirnar prufaðar. Kvenfélag Grindavíkur var stofnað árið 1923 og eru félagar um 170 talsins.
Garður mætir Árneshreppi í Útsvari
STARFSSVIÐ • Yfirumsjón og ábyrgð á íþrótta-, frístunda- og menningarmálum • Gerð starfs- og fjárhagsáætlana sviðsins • Ráðgjöf, undirbúningur og framlagning mála fyrir frístunda og menningarnefnd og bæjarráð ásamt eftirfylgni mála • Þjónusta við íbúa á sviði íþrótta-, frístunda-, forvarna- og menningarmála MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af stjórnun verkefna og rekstri • Reynsla af stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana • Reynsla og þekking á stjórnsýslu og málefnum sveitarfélaga er æskileg • Hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að stjórna breytingum • Sjálfstæði, frumkvæði og rík skipulagshæfni • Góð kunnátta í íslensku í ræðu og riti Nánari upplýsingar um starfið veitir Róbert Ragnarsson bæjarstjóri í síma 420 1100 og robert@grindavik.is Umsóknarfrestur er til og með 3. október nk. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál, en listi umsækjenda verður opinber að umsóknarfresti liðnum. Umsókn um starf þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar.
Tveir nýliðar í Útsvarsliði Grindavíkur ●●Fyrsta viðureignin gegn Borgarbyggð 4. nóvember Andrea Ævarsdóttir, Agnar Steinarsson og Eggert Sólberg Jónsson munu skipa lið Grindavíkur í spurningaþættinum Útsvari á RÚV í vetur. Liðið kom saman til æfinga í síðustu viku en fyrsta viðureignin verður á móti Borgarbyggð 4. nóvember. Agnar var í sigurliði Grindavíkur í Útsvari árið 2012 og því reynslumikill í faginu. Hann er líffræðingur að mennt og starfar hjá Hafró í Grindavík. Andrea er nýliði í Útsvarinu í ár. Á vef Grindavíkurbæjar kemur fram að
hún sé þó enginn nýliði þegar kemur að fróðleik, enda safnstjóri Bókasafns Grindavíkur. Hún er bókasafns- og upplýsingafræðingur. Eggert er fæddur og uppalinn í Borgarnesi og því mun mikið mæða á honum í fyrstu viðureigninni gegn sínum gömlu sveitungum. Hann er þjóðfræðingur að mennt og verkefnastjóri Reykjanes Geopark. Daníel Pálmason verður svo símavinur Grindvíkinga í ár.
■■Frumraun Garðmanna í Útsvari á RÚV verður gegn Árneshreppi annað kvöld, föstudagskvöld. Alls munu 24 sveitarfélög etja kappi í Útsvari í vetur. Auk Sveitarfélagsins Garðs eiga tvö önnur sveitarfélög á Suðurnesjum lið í keppninni í vetur. Það eru Grindavík og Sandgerði. Dregið er um sveitarfélög til þátttöku og í ár kom nafn Garðs upp við drátt úr hópi fámennari sveitarfélaga. Þar var nafn Árneshrepps einnig. Eins og áður hefur verið greint frá er búið að velja í lið Garðs og munu eftirtalin skipa liðið: Magnús Guðmundsson, kennari og fyrrverandi skipstjóri, Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur og Guðjón Árni Antoníusson, íþróttafræðingur og knattspyrnukappi. Garðmenn eru hvattir til að mæta í sjónvarpssal á föstudagskvöld og hvetja sitt fólk til dáða.
Auglýsingasíminn er
421 0001
SÉRKJÖR Á VÖLDUM BÍLUM Eigum nokkra sýningar- og reynsluakstursbíla sem við bjóðum á sérkjörum. Kíktu í Opel salinn eða hafðu samband við sölufulltrúa í Reykjanesbæ í síma 420 3330.
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ
TAKMARKAÐ MAGN
LÁTTU OPEL KOMA ÞÉR SKEMMTILEGA Á ÓVART! opel.is | benni.is
Reykjavík Tangarhöfða 8 590 2000
Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18 Laugardaga frá 12 til 16 Verið velkomin í reynsluakstur
OPEL Á ÍSLANDI Kynntu þér Opel fjölskylduna á benni.is | opel.is
18
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. september 2016
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar, elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Guðlaugar Huldu Halldórsdóttur, Norðurvöllum 36, Reykjanesbæ,
Sérstakar þakkir til ættingja og vina, MND teymis LSH Fossvogi, ígræðslu teymis LSH Hringbraut, starfsfólks B-2 Taugadeild LSH Fossvogi, starfsfólks Heimahjúkrunar HSS, starfsfólks D-deildar HSS, starfsfólks heimaþjónustu Reykjanesbæjar, starfsfólks aðhlynningar Reykjanesbæjar, starfsfólks Hrafnistu Nesvöllum Reykjanesbæ, Reykjanesbæjar, stjórnar og félaga MND félags Íslands, Sjúkratrygginga Íslands og Tryggingastofnunar ríkisins. Örn S. Eiríksson, Ólafur Örn Arnarson, Arnar Már Arnarson, Eiríka Ösp Arnardóttir, Guðlaug Anna Arnardóttir, og barnabörn.
Brynja D. Eiríksdóttir, Aðalheiður Ásdís Þ., Elí Úlfarsson, Guðbjartur Rúnar Magnússon,
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
Halldór Guðbrands Bárðarson,
Hlévangi, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þriðjudaginn 13. september. Útför hans fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, föstudaginn 23. september kl. 13:00. Guðlaug Bárðardóttir, Oliver Bárðarson,
Ólafur Þ. Guðmundsson, Halldóra Jóna Guðmundsdóttir,
ZETO Í STARTUP ENERGY REYKJAVÍK ATVINNA
og systkinabörn.
GERÐASKÓLI ÓSKAR EFTIR KENNARA Vegna sérstakra forfalla vantar okkur kennara. Upplýsingar veita Jóhann Geirdal skólastjóri, johann@gerdaskoli.is sími 8984808 Ragnhildur Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri, ragnhildur@gerdaskoli.is sími 8454270. Umsóknafrestur er til 6. október nk.
AÐALFUNDUR
Sjálfsbjargar á Suðurnesjum verður haldinn sunnudaginn 25. september í húsi félagsins á Iðavöllum 9A kl. 16:00. Venjuleg aðalfundarstörf og kaffiveitingar Stjórnin
●●„Dýrmætt stuðningsnet,“ segir Eydís Mary Jónsdóttir, ● umhverfisfræðingur og frumkvöðull
Nýsköpunarfyrirtækið Zeto tekur þessa dagana þátt í Startup Energy Reykjavík viðskiptahraðlinum. Að sögn Eydísar Mary Jónsdóttur, umhverfisfræðings og frumkvöðuls hjá Zeto, er það mikil viðurkenning að Zeto sé ein þeirra hugmynda sem valin var til þátttöku. Hjá Zeto er unnið að þróun á lífvirkum húð-, hár- og sápuvörum úr þaraþykkni. „Þetta mun án efa hjálpa okkur við fjármögnun fyrirtækisins. Það er gríðarlega kostnaðarsamt að setja á markað húðvörur og því mikilvægt að vera með sterka bakhjarla. Það er mikill fengur í því fyrir okkur að hafa aðgang að því stuðningsneti sem Startup Reykjavík veitir,“ segir hún. Þarinn sem notaður er í þykknið er lífrænt vottaður og sérunninn hjá Þörungavinnslunni á Reykhólum. Þaraþykknið er búið til á Skagaströnd og vörurnar á Grenivík. Eydís býr í Reykjanesbæ og því má segja að starfsemin teygi sig víða. Aðferðin við að ná þykkninu úr þaranum er einstök og ekki notuð annars staðar í heiminum. Stefnt er sett á að setja fyrstu vörulínu Zeto á markað á næsta ári. Fyrirtækin sjö sem fá inngöngu í hraðalinn fá 5 milljónir hvert gegn 10 prósenta eignarhlut sem Arion banki, Landsvirkjun, Nýsköpunarmiðstöð og GEORG eignast í sameiningu. Auk þess fá fyrirtækin sameiginlega vinnuaðstöðu og aðstoð fjölda mentora úr atvinnulífinu, háskólasamfélaginu og orkugeiranum. Hraðlinum lýkur með sérstökum fjárfestadegi þar sem forsvarsmenn fyrirtækjanna kynna hugmyndir sínar fyrir fjárfestum. Startup Energy Reykjavík er á vegum Icelandic Startups sem áður hét Klak Innovit. Hjá Icelandic Startups er haldið utan um íslensku viðskiptahraðlana Startup Reykjavík sem hýsir almenn nýsköpunarfyrirtæki, Startup Energy Reykjavík sem hýsir sprotafyrirtæki í orkugeiranum og Startup Tourism sem er sérstaklega miðaður að ferðaþjónustunni. Viðskiptahraðall (e. business accelerator) er nýtt hugtak á Íslandi og eru þrír hraðlar starfandi, Startup Reykjavík, Startup Tourism og Startup Energy Reykjavík. Hlutverk viðskiptahraðla er að hraða ferlinu sem fyrirtæki fara í gegnum frá því
að hugmynd fæðist og þar til viðskipti fara að blómstra. Fyrsti hraðallinn fór af stað sumarið 2012 en Startup Energy Reykjavík bættist í hópinn vorið 2014. Markmið Startup Energy Reykjavík er að styðja við sjö sprotafyrirtæki í orku- eða orkutengdum greinum og hjálpa þeim að komast eins langt og mögulegt er með sínar viðskiptahugmyndir á tíu vikum. „Tenging Zeto við orkugeirann er sú að þaraþykknið, sem við byggjum vörurnar okkar á, er framleitt með nýrri aðferð, án kemískra efna til að tryggja hreinleika og lífvirkni þykknisins. Í stað efna og ensíma notum við nýja tækni í vélbúnaði og því er orka mjög mikilvæg í okkar grunnframleiðslu,“ segir Eydís. Að sögn Eydísar er mjög misjafnt hversu langt fyrirtækin eru komin í sinni vinnu áður en þau fá inngöngu í hraðlana. Að baki sumra hugmyndanna er margra ára vinna en önnur eru enn á hugmyndastigi. „Í tilfelli Zeto höfum við verið í vöruhönnun og prófunum í nokkur ár. Við ákváðum svo í nóvember 2015
að stofna um verkefnið fyrirtæki og keyra það í gang.“ Í byrjun árs 2016 tók Zeto þátt í Gullegginu, sem er frumkvöðlakeppni Icelandic Startups og hlaut þriðju verðlaun fyrir viðskiptaáætlun sína. „Þetta er keppni sem ég mæli hiklaust með fyrir alla með frumkvöðladrauma. Við fengum mikinn stuðning við gerð viðskiptaáætlunarinnar, mótun viðskiptahugmyndarinnar og þjálfun í að koma hugmyndinni á framfæri. Svo það sem skiptir kannski mestu máli var öll sú jákvæða orka og viðurkenning sem við fengum í gegnum þátttökuna og ekki síst tengsl við fólk sem hefur hjálpað okkur áfram á ótal vegu.“ Zeto fékk í sumar þrjá frumkvöðlastyrki; frá Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka, Átaki til atvinnusköpunar og Fræi Tækniþróunarsjóðs og segir Eydís þá hafa gert þeim kleift að láta efnagreina og geymsluþolsmæla þaraþykknið, gera markaðskönnun og hefja vinnu að vörumerki og útliti Zeto með grafískum hönnuði. dagnyhulda@vf.is
20
VÍKURFRÉTTIR
Menntapenninn:
Samvinnuverkefni okkar allra Mennta-og menningarmálaráðuneyti og sveitarfélög hafa gert með sér þjóðarsáttmála um læsi og í sameiningu á að bæta læsi barna á Íslandi til framtíðar. Markmið er að 90% barna geti við lok grunnskóla lesið sér til gagns. Ef nemendur eiga í erfiðleikum með lesskilning getur það haft neikvæð áhrif á Anna Hulda námsf ramvindu og einnig atvinnutækifæri síðar meir. Samkvæmt PISA árið 2012 kom í ljós að næstum þriðji hver strákur og um 12% stúlkna í 10. bekk geta ekki lesið sér til Anna gagns en þessu hlutfalli Sigríður stefnum við á að breyta og nú snúum við vörn í sókn. Við þurfum að fylgja eftir skýrri markmiðssetningu um árangur í læsi og til
þess að það gangi vel þarf gott samstarf á milli skólastjórnenda, kennara, nemenda og foreldra. Í Reykjanesbæ höfum við gott bókasafn sem öll börn hafa aðgang að, það gegnir mikilvægu hlutverki í samstarfinu. Læsi barna er samvinnuverkefni sem við getum öll tekið þátt í og meginmarkmið Læsissáttmálans er að stuðla að aukinni lestrarfærni barna með virkri þátttöku og stuðningi foreldra. Heimili og skóli heldur stutta kynningu á Læsissáttmálanum í Íþróttaakademíunni Krossmóa 58, þriðjudaginn 27. september klukkan 18 og hvetjum við alla foreldra og allt skólafólk í Reykjanesbæ til að fjölmenna á kynninguna. Lestrarkveðja, Verkefnastjórar FFGÍR Anna Hulda og Anna Sigríður https://www.facebook.com/ffgir/
Það er víða myndarlegur gróður á Suðurnesjum.
Gerum bæinn snyrtilegri og betri Berglind Ásgeirsdóttir garðyrkjustjór Reykjanesbæjar segir flesta garðeigendur til fyrirmyndar og að gaman sé að sjá hvað samfélagið í heild sé öflugt og áhugasamt um umhverfið. „En lengi má gott bæta og starfsfólk Umhverfissviðs hvetur lóðarhafa til að huga að þessum málum og lagfæra það sem betur má fara. Verum til fyrirmyndar og hjálpumst að við að gera bæinn okkar enn snyrtilegri og betri, því Reykjanesbær er bærinn okkar og ábyrgðin okkar,“ segir hún í pistli á heimasíðu bæjarins. „Nú hallar að vetri og því vert að huga að þeim gróðri sem nær út fyrir lóðarmörk, inn á göngustíga og önnur svæði utan lóða. Margir garðar hér
í Reykjanesbæ hafa tekið miklum breytingum í veðurblíðu síðustu misseri og hafa í sumar blómstrað sem aldrei fyrr. Nauðsynlegt er að allir komist leiða sinna um bæinn okkar og því mikilvægt að íbúar haldi í skefjum gróðri við lóðamörk og gæti þess að gróður vaxi ekki m.a. inn á göngustíga. Ekki er síður mikilvægt að klippa og snyrta gróður sem snýr að umferðargötum og sjá til þess að hann skyggi ekki á útsýni vegfarenda, valdi ekki skemmdum á ökutækjum sem þar fara um eða töfum á snjómokstri. Gróður má almennt ekki að skyggja á umferðarmerki, götuheiti eða lýsingu,“ segir Berglind.
fimmtudagur 22. september 2016
Birgir Guðnason - minning Í stuttri grein næst varla að opna innganginn að lífi Birgis Guðnasonar sem hefur lagt líf sitt í að sinna samfélaginu, aðstoða fólk, byggja upp, skapa og varðveita arfinn, vernda hús og söguna, Faxi, Gamla Búð, Mánahesturinn, Listasafn Erlings, Keflavíkurkirkja og Rotarý. Hvert þessara verkefna gæti verið efni í bók en eru aðeins brot af hugsjónum og verkum þessa bjarta og fallega manns, víkingsins hvíthærða með rauðbirkið skeggið sem allir þekktu. Á milli þétt liðna hársins og skeggsins skein brosmilt andlitið og blikið í glaðlegum augunum bar vott um ánægjuna sem fylgdi lífinu og fyllti viðburðarríkt líf hans. Birgir var þéttur á velli en svo miklu stærri að innan en utan að ég velti fyrir mér óendanleika hugmyndarýmisins sem líka var fullt af hlýju og kærleika. Birgir var hugmyndasmiður sem kom hugsunum sínum í framkvæmd en lét þær ekki feykjast burt með vindinum. Birgir Guðnason var menningarleg stóriðja sama hvaða mælikvarða menn nota. Við erum tengdir órjúfanlegum fjölskylduböndum og ég man ekki eftir Bigga Guðna öðruvísi en á leið frá því að koma hugmynd í framkvæmd eða hefja göngu nýrrar hugmyndar. Alltaf með mörg járn í eldinum og ekki allir sem náðu að fylgja honum eftir. Hann var fyrirferðarmikill í öllu sem hann tók sér fyrir hendur og sá tækifærin drjúpa af hverju strái, þar var ekkert hálfkák, ekkert smátt en allt mögulegt. Þannig menn rekast stundum á veggi í samfélaginu en sem betur fer komst Biggi áfram með mörg góð mál. Menn sem láta að sér kveða, eru óhræddir við að láta drauma sína rætast sjálfum sér og öðrum til ómældrar ánægju þegar þeir hafa orðið að veruleika. Draumar sem eru tóm orð og glamur þar sem bent er á aðra voru ekki hans stíll. Birgi var ekkert óviðkomandi, hann mátti ekkert aumt sjá og hann hjálpaði mörgum. Þegar við Sigga fluttum í Reykjanesbæ 2003 var allt klárt þegar við komum, íbúð og vinna. Hjálpsemi hans vakti yfir velferð okkar frá fyrsta degi til þess síðasta og hann gekk í Sjálfstæðisflokkinn bara til að styðja við bakið á mér á lokasprettinum. Það var sannkallað vinarbragð. Birgir Guðnason var gleðimaður í bestu merkingu þess orðs, skemmtilegur samferðamaður sem gaf sér tíma til að ræða við fólk.
VF.IS
Þegar hann var kominn í gírinn náði hugurinn og áhuginn tökum á honum og þá var ekki hægt að slíta samtalið, hann hélt í þig og ég gleymdi stund og stað. Gestrisni hans var viðbrugðið eins og ræktarseminni við allt hans fólk, vini og vandamenn heima og erlendis. Alls staðar á hann vini sem hugsa fallega til hans og fjölskyldunnar sem stóð að baki honum alla tíð. Við Sigga erum þakklát fyrir allar stundirnar fyrr og nú. Oft komum við frá Eyjum til að eiga daga með fjölskyldu okkar í Keflavík og þær stundir eru geymdar í minningabankanum. Síðustu misserin hafa verið Birgi og fjölskyldu erfið, veikindin bönkuðu upp á og heilsan gaf sig smátt og smátt þar til lokabaráttan hófst. Æðruleysið var eins og annað í hans lífi, hann bar sig með reisn og sagði við mig í síðustu heimsókninni að honum liði vel og bað mig að stoppa stutt. Þá vissi ég að hann var sjálfur orðinn hluti af sögunni sem hann hafði skrifað fyrir aðra. Við vottum Hörpu frænku og fjölskyldunni allri samúð. Ásmundur Friðriksson Sigríður Magnúsdóttir Keflavíkurkirkja stendur í miðjum gamla bænum í Keflavík, umhverfis hana standa gömlu húsin, sem byggðust upp í kringum hana, um og eftir aldamótin 1900. Þessi gamli hluti bæjarins var Birgi Guðnasyni kær. Hann var húsfriðunarmaður, unnandi menningarminja og gerði upp gömul hús ásamt ótalmörgu öðru sem hann tók sér fyrir hendur. Honum var líka annt um að smekklega væri að húsum búið utanhúss sem innan. Það var því ekki að undra að honum væri falið það verkefni að vera formaður byggingarnefndar, þegar hafist var handa við að byggja nýtt safnaðarheimili við Keflavíkurkirkju. Það var einnig í hans anda að vanda vel það sem lengi ætti að standa. Það var ekki síst hans verk að Kirkjulundur, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju, sem vígt var árið 2000, varð verðlaunabygging, hús sem vekur hrifningu og aðdáun þeirra sem það augum líta. Það krafðist mikils þors og mikillar vinnu að koma því húsi upp, sem olli miklum hugaræsingi margra íbúa bæjarins, mótmælalistar voru skrifaðir og hatrammlega var barist gegn húsinu meðan á byggingu þess stóð. Þegar
Skrifstofur sýslumannsins á Suðurnesjum í Keflavík og Grindavík verða lokaðar föstudaginn 23. september nk. vegna starfsdags.
Birgir Guðnason starfaði í sóknarnefnd Keflavíkurkirkju á annan áratug. Litríkur og margbrotinn persónuleiki, hlýr og brosmildur, en fastur fyrir og lét ekki auðveldlega af skoðunum sínum. Ég hygg að fáir hafi unnað kirkjunni af meiri alúð en hann og ekki veit ég um neinn sem hefur mætt jafn vel í messur og kyrrðarstundir. Birgir var í rauninni margir “Biggar”. Sá blíði, sá kærleiksfulli, sá stjórnsami, sá samviskusami, sá þrjóski og sá þolgóði. Við sem unnum með honum í sóknarnefndinni kynntumst þeim öllum og því fylgdu auðvitað deilur en aldrei bar skugga á vináttuna okkar á milli. Birgir var á einhvern sérstakan hátt tímalaus maður, mér fannst hann aldrei eldast neitt frá því ég kynntist honum fyrst fyrir rúmlega 30 árum. Fram á síðasta dag bar hann hag Keflavíkurkirkju fyrir brjósti og honum var mikið í mun að unnt yrði að gera upp orgel kirkjunnar svo sómi væri að. Hann var sáttur við endurgerð kirkjunnar í upprunalegt horf og gladdi það okkur samferðamenn hans í kirkjustarfinu, þegar hann stóð upp á síðasta aðalsafnaðarfundi og lýsti ánægju sinni með það verk. Að leiðarlokum vil ég þakka, fyrir hönd sóknarnefndar, öll hans kærleiksríku verk fyrir Keflavíkurkirkju. Megi blessun fylgja honum og fjölskyldu hans allri. Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir
FYLGSTU MEÐ Í...
Í NÝJUM FÖTUM
SPJALDTÖLVUNNI TÖLVUNNI
SNJALLSÍMANUM
LOKAÐ
VEGNA STARFSDAGS
byggingunni var hins vegar lokið var komið annað hljóð í strokkinn, þá hljóðnuðu óánægjuraddirnar og aðdáun og þakklæti kom í staðinn.
HEIÐARLEIKI - FAGMENNSKA - METNAÐUR
SELUR ALLT
Þann dag liggur öll starfsemi embættisins niðri, þ. á m. símsvörun. Þrátt fyrir það munu áður auglýst uppboð fara fram kl. 10:00 á skrifstofu sýslumanns í Keflavík. RB Þórarinn Kópsson
Löggiltur fasteignasali Sími: 615-3343
RB Páll Þorbjörnsson Aðstoðarmaður Sími: 698-6655
RB Ólafur Kristjánsson Aðstoðarmaður Sími: 786-1414
GR Þorbjörn Pálsson
Löggiltur fasteignasali Sími: 898-1233
GR Dagbjartur Willardsson Aðstoðarmaður Sími: 861-7507
RB ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALA SUÐURNESJA
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Ásdís Ármannsdóttir
Hafnargata 91 - Reykjanesbær - sími 560-5515 sudurnes@alltfasteignir.is
GR ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALAN Í GRINDAVÍK Víkurbraut 46 - Grindavík - sími 426-8890 - grindavik@alltfasteignir.is
Sjónvarp Víkurfrétta • fimmtudagskvöld kl. 21:30 • ÍNN og vf.is
Fjölbraut í 40 ár
Fjölbrautaskóli Suðurnesja fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir. Dagskrárgerðarfólk Sjónvarps Víkurfrétta hefur verið á ferðinni um skólann á síðustu dögum og tekið saman innslag um þessa stærstu menntastofnun Suðurnesja, rætt við stjórnendur, kennara og nemendur.
Baráttan um Brautina Yfir 16.000 einstaklingar hafa sameinast í baráttuhóp á fésbókinni þar sem samgöngubætur á Reykjanesbraut í Reykjanesbæ hafa verið á oddinum. Samstaðan hefur skilað árangri eins og Ísak Ernir Kristinsson, talsmaður baráttuhópsins segir í viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta.
Hraðlestin nálgast Mikil undirbúningsvinna hefur verið unnin vegna fyrirhugaðrar hraðlestar milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og miðborgar Reykjavíkur. Sjónvarp Víkurfrétta ræddi við þá Runólf Ágústsson og Kjartan Þór Eiríksson um hraðlestarmál. Þú getur horft á Sjónvarp Víkurfrétta á eftirtöldum miðlum: • ÍNN • vf.is • Youtube • Facebook Live
Sjónvarp Víkurfrétta er í háskerpu á vf.is
22
VÍKURFRÉTTIR
Listamannaspjall - Blómahaf
Njóttu lífsins
Health Promotion System
Ert þú frábær hjúkrunarfræðingur? Vaxandi fyrirtæki á sviði heilsueflingar og vinnuverndar óskar eftir að ráða metnarðarfullan og skipulagðan hjúkrunarfræðing til starfa Starfssvið • • • •
Heilsufarsþjónusta Heilsufarsráðgjöf Heimsóknir til fyrirtækja Rannsóknir á sviði heilsu-og vinnverndar
Menntunar- og hæfniskröfur • • • • • •
fimmtudagur 22. september 2016
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði, viðbótamenntun er kostur Reynsla af heilsuvernd og ráðgjöf æskileg Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund Reynsla og áhugi á teymisvinnu og þverfaglegu samstarfi Hæfni til að vinna sjálfstætt að verkefnum Mjög gott vald á íslensku máli og góð enskukunnátta
Stuðningur - Þekking - Traust Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Friðrik Friðriksson - johann@nexis.is
Við eigum bara eitt líf og öll viljum við lifa því við góða heilsu. Það er okkar markmið hjá Nexis að veita bestu þjónustu á sviði heilsueflingar sem völ er á út frá nýjustu rannsóknum og viðurkenndum aðferðum. Við hlustum, metum og ráðleggjum útfrá þörfum hvers og eins, því öll erum við ólík en öll erum við einstök.
●●verk eftir Elínrós Blomquist Eyjólfsdóttur í Bíósalnum Duus húsum ● á sunnudag, 25. september, klukkan 15 Næstkomandi sunnudag 25. september klukkan 15 mun Elínrós Blomquist Eyjólfsdóttir leiða gesti um sýningu sína Blómahaf í Duus safnahúsum ásamt sýningarstjóranum Gunnhildi Þórðardóttur. Á sýningunni, sem var opnuð 1. september síðastliðinn, getur að líta málverk, teikningar og skissur, postulín og skartgripi. Verkin eru sum hver mjög stór olíumálverk sem áður voru til sýnis í Hofi á Akureyri fyrr á þessu ári en einnig eru minni verk og landslagsverk. Myndheimur Elinrósar er draumkenndur en á sama tíma raunsær þar sem myndefnið er málað af mikilli nákvæmni og af raunsæi og virðingu fyrir efninu. Á myndunum lifnar gróðurinn við og hefur áferð hollensku meistaranna. Form og listræn fegurð myndanna hefur mikið gildi og er hægt að skynja lífrænan kraft þeirra. Elinrós hefur tekið þátt í sýningum víða bæði á Íslandi og erlendis, meðal annars í Hofi, í Hafnarborg, Gallerí Horninu, Bretlandi og Bandaríkjunum. Eftir víðtækt nám í postulínsmálun hóf Elinrós nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands þar sem hún
lauk námi úr málaradeild á árinu 1987. Árið 1995 lauk hún meistaranámi í málun frá Skidmore College í Bandaríkjunum. Hún hefur einnig sótt fjölda námskeiða erlendis og verið í gestavinnustofum. Elínrós er meðlimur í Sambandi íslenskra myndlistarmanna og í Nordiska Akvarellsallskapet. Sýningin er opin alla daga
frá klukkan 12 til 17 og stendur til 6. nóvember. Nánari upplýsingar veitir Elínrós Eyjólfsdóttir í síma 869 2026 og Valgerður Guðmundsdóttir í síma 864 9190. Einnig eru upplýsingar á vefsíðunum www.elinros.com og á vefsíðu safnsins www.listasafn.reykjanesbaer. is.
Skoða að bjóða upp á innanlandsflug um Keflavíkurflugvöll allt árið
STARF HJÁ IGS IGS leitar að öflugum einstakling í fjölbreytileg og skemmtileg starf hjá fyrirtækinu. Um er að ræða starf á tækjaverkstæði Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi, sveiganleika og árvekni. Unnið er á vöktum. TÆKJAVERKSTÆÐI
Starfið felst m.a. í viðhaldi og eftirliti tækja og véla sem notuð eru við afgreiðslu flugvéla og tengdri starfsemi.
Hæfniskröfur: - Hvers konar framhaldsskólamenntun s.s. bifvélavirkjun og vélvirkjun, æskilegt er að umsækjandi sé vanur/vön bílarafmagni og vélvirkjun.
■■Flugfélag Íslands hefur boðið upp á flug á milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar yfir sumartímann og eru stjórnendur fyrirtækisins nú að skoða þann möguleika að bjóða einnig upp á flugið utan háannatíma. Frá þessu er greint á vefnum Turisti.is. Haft er eftir Árna Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands, að ekki sé komin endanleg niðurstaða varðandi það hvort og hvenær verði hægt að hefja flug frá Keflavíkurflugvelli til Akureyrar á öðrum árstímum en nú er. Málið sé enn til skoðunar en Árni vonast til að niðurstaða liggi fyrir á næstu vikum.
SMÁAUGLÝSINGAR Óska eftir Vantar íbúð til leigu sem fyrst, má vera 2ja til 3ja herbergja, má vera hvar sem er á Suðurnesjum. Hafið endilega samband í síma 861 8311. Óska eftir VHS tæki, þarf að vera í lagi og vel með farið. Upplýsingar í síma 421-3711.
Verið velkomin
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00
- Góð íslensku og enskukunnátta - Tölvukunnátta - Almenn ökuréttindi og vinnuvélaréttindi - Öguð, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
- Útsjónarsemi og heiðarleiki
Umsókn sendist rafrænt til svala@igs.is Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri tækjaverkstæðis í síma. 8969344. Umsóknir berist ekki síðar en 4. október 2016.
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Atvinnuleysi aldrei verið minna ■■Atvinnuleysi var aðeins 1,7% á Suðurnesjum í ágúst í sumar og hefur minnkað um nærri helming frá því á síðasta ári þegar það nam 3%. Meðalfjöldi atvinnulausra í ágúst á Suðurnesjum voru 203, 108 konur og 95 karlar. Fækkun atvinnulausra frá sama mánuði í fyrra nemur 142. Á árunum 2009 til 2011 var atvinnuleysi á Suðurnesjum á bilinu 10 til 11,4% en farið jafnt og þétt minnkandi. Atvinnuleysið núna er örlítið minna en góðærisárið 2007 og hefur verið lægra í áratugi.
Framsókn í Reykjanesbæ skorar á Sigurð Inga ■■Framsóknarfélag Reykjanesbæjar samþykkti á aðalfundi sínum á fimmtudag í síðustu viku að skora á Sigurð Inga Jóhannsson, forsætisráðherra, að gefa kost á sér í kjöri til formanns Framsóknarflokksins. Kosið verður í embættið á flokksþingi Framsóknarflokksins 1. til 2. október næstkomandi.
fimmtudagur 22. september 2016
23
VÍKURFRÉTTIR
Elías aftur á skotskónum í Svíþjóð ■■Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson skoraði sitt annað mark á stuttum tíma með nýju félagi, IFK Gautaborg, í 2-2 jafnteflisleik í nágrannaslag gegn Häcken í sænsku úrvalsdeildinni. Elías skoraði seinna mark IFK á 60. mínútu leiksins. Liðsmenn Häcken girtu sig hins vegar í brók og jöfnuðu með tveimur mmörkum á aðeins níu mínútum. Lokatölur 2-2.
Andri Orri Hreiðarsson lenti í 3. sæti á mótinu. Hann er til hægri á myndinni.
Tvö Íslandsmet í tveimur aldursflokkum ■■Lyftingafólk af Suðurnesjum náði góðum árangri á haustmóti Lyftingasambands Íslands sem fram fór í Hveragerði um síðustu helgi. Katla Björk Ketilsdóttir setti Íslandsmet í jafnhendingu, snörun og samanlögðu í tveimur flokkum, 17 ára og yngri og 20 ára og yngri. Katla lyfti 66 kg í snörun og 82 kg í jafnhendingu og fékk 205.6 sinclair stig og lenti í 3. sæti á mótinu. Katla er aðeins 16 ára gömul og á því enn eftir að vera í eitt ár í flokki 17 ára og yngri. Andra Orra Hreiðarssyni gekk einnig vel á mótinu og lenti í 3. sæti með 280.1 sinclair stig. Andri lyfti 100 kg í snörun og 122 kg í jafnhendingu.
Þróttarar lögðu Reyni í lokaumferðinni ●●Magnús leggur skóna á hilluna Leikmenn Þróttar í Vogum lögðu nágranna sína úr Sandgerði í síðastu umferð 3. deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu síðasta laugardag. Lokatölur urðu 4-3 fyrir Vogamenn í skemmtilegum markaleik. Víðismenn, sem þegar höfðu tryggt sér sæti í 2. deild á næsta ári, sigruðu í sínum lokaleik. Heimamenn í Þrótti komust í 2-0 með mörkum Elvars Freys Arnþórssonar og Tómasar Inga Urbancic en Sandgerðingar jöfnuðu með tveimur mörkum Þorsteins Þorsteinssonar og Róberts F. Samaniego. Þá kom Magnús Ólafsson inn á hjá Þrótti og skoraði stuttu síðar og kom þeim í 3-2. Tómas Ingi bætti við fjórða markinu tveimur mínútum síðar en Sandgerðingar áttu síðasta orðið í leiknum þegar þeir minnkuðu muninn í 3-4 með marki Birgir Freys Sigurðssonar. Sandgerðingar enduðu í 6. til 7. sæti deildarinnar en Þróttarar í 5. sæti. Víðismenn í Garði höfðu fyrir nokkru tryggt sér 2. sætið í deildinni en þeir
sigruðu Vængi Júpiters í lokaumferðinni 0-2. Aleksandar Stojkovic og Sigurður Þór Hallgrímsson skoruð mörk Víðis.
Magnús hættur
Elsti leikmaður Þróttara í Vogum, hinn 44 ára Magnús Ólafsson, gaf það út fyrir leikinn gegn Reyni í Sandgerði að þetta yrði hans síðasti leikur. Kappinn var á varamannabekknum og kom inn á þegar um fjórðungur var eftir af síðari hálfleik. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði þriðja mark Þróttar á glæsilegan hátt.
VILTU ÞÚ OPIN LANDAMÆRI OG ÓHEFTAN INNFLUTNING HÆLISLEITENDA?
ÞAÐ VILJUM VIÐ EKKI! KJÓSUM XE SÍMI 831-1867 GUÐMUNDUR KARL ÞORLEIFSSON.
Íslenska Þjóðfylkingin
Magnús fékk mynd frá félögum sínum eftir leikinn í tilefni af því að hann lék sinn 50. leik með Þrótti fyrr í sumar. Hann á skráða 314 leiki í öllum deildum og yngri flokkum, m.a. með KR og Víði. Magnús hefur lofað eiginkonu sinni og félögum í liðinu að hann sé hættur í fótbolta „þangað til næst“.
16-2719 — HVÍTA HÚSIÐ / SÍA
Katla lyfti 66 kg í snörun og 82 kg í jafnhendingu og lenti í 3. sæti á mótinu.
V I LT Þ Ú V E R Ð A H L U T I AF GÓÐU FERÐALAGI? Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið. Nú vantar okkur fleiri til að vera hluti af góðu ferðalagi með okkur.
F R A M T Í Ð A R S TA R F Í FLUGVERNDARDEILD Helstu verkefni felast í vopna- og öryggisleit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og eftirliti í flugstöðinni og á flughlöðum á Keflavíkurflugvelli. Um vaktavinnu er að ræða. Hæfniskröfur: • Aldurstakmark 20 ár • Rétt litaskynjun • Tveggja ára framhaldsnám eða sambærilegt nám æskilegt • Góð þjónustulund • Hreint sakavottorð Allir umsækjendur þurfa að geta sótt og staðist undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja störf. Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þá þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni.
Isavia hlaut gullmerki PwC fyrir launajafnrétti í jafnlaunaúttekt PwC 2015 og 2016. Við erum stolt af þeirri niðurstöðu og er hún í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað.
STA RF S STÖ Ð : K E F LAV ÍK U RFL U G VÖ L L U R
UMSÓKNAR FR ESTUR : 2. OKTÓBER 201 6
Arnar starfar við flugvernd í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann er hluti af góðu ferðalagi.
UMSÓKNIR ISAVIA.IS /ATVI NNA
Mundi
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
Borgum á morgun eða hinn. Kveðja, Thorsil
instagram.com/vikurfrettir
Fjör í frímínútum ●●Vinaliðar skipuleggja leiki
Skotboltinn er vinsæll leikur í frímínútum.
Hjá Stóru-Vogaskóla í Vogum er nú að hefjast annað skólaárið þar sem vinaliðaverkefni er starfrækt. Verkefnið gengur út á það að vinaliðar úr 3. til 7. bekk skipuleggja fjölbreytta leiki í löngu frímínútunum. Að sögn Svövu Bogadóttur, skólastjóra Stóru-Vogaskóla, er markmiðið að allir nemendur hlakki alla daga til að mæta í skólann sinn. Vinaliðaverkefnið er norskt að uppruna og hefur á fáum árum náð mikilli útbreiðslu og er nú starfrækt í yfir þúsund skólum í Noregi. Vinaliðaverkefnið í Vogum hefur gengið vel og nemendur ánægðir með nýja skipulagið í frímínútum. Svava segir gaman að sjá hve duglegir nemendur er að taka þátt í leikjum og kenna hvert öðru. „Á síðasta skólaári www.n1.is
bættum við leikföngum og áhöldum smátt og smátt við, bæði eftir ábendingar frá krökkunum sjálfum og samskipti við vinaliða annara skóla,“ segir hún. Fyrirkomulagið er þannig að á hvorri önn veljast 20 krakkar úr 3. til 7. bekk og fara þau öll á vinaliðanámskeið í upphafi annar. Skólalóðin og frímínúturnar eru, samkvæmt rannsóknum, helsti vettvangurinn fyrir einelti. Vinaliðaverkefnið er ekki eineltisáætlun heldur stuðningsverkefni við eineltisáætlun skólans og er hugmyndafræðin sú að þar sem boðið er upp á skipulagt starf, fái gerendur eineltis aðra hluti til að hugsa um. Aðgerðarleysi er nefnilega oft rótin að slæmum hlutum.
Þessi hópur var í flöskustút en gaf sér smá tíma í myndatöku.
Mikil ánægja er með vinaliðaverkefnið í Stóru-Vogaskóla.
Hressar vinkonur saman í frímínútum.
Þessir krakkar voru saman í flöskustút í frímínútum.
facebook.com/enneinn
Rúllaðu inn í veturinn á nýjum dekkjum Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is
Michelin X-ICE
Michelin X-ICE NORTH
Michelin Alpin 5
Hljóðlát og naglalaus vetrardekk
10% styttri hemlunarvegalengd á ís
Endingargóð naglalaus vetrardekk
Ný APS gúmmíblanda tryggir gott grip í kulda og hita
Færri naglar en meira grip
Sérhönnuð fyrir fjölskylduog borgarbíla
Aukið öryggi og meiri virðing fyrir umhverfinu
Frábærir aksturseiginleikar
Mikið skorið og stefnuvirkt munstur sem veitir frábært grip við erfiðar aðstæður
Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða Fellsmúla Réttarhálsi Ægisíðu
440-1318 440-1322 440-1326 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ Reykjavíkurvegi Hafnarfirði Grænásbraut Reykjanesbæ Dalbraut Akranesi
440-1378 440-1374 440-1372 440-1394
Opið mán – fös kl. 08-18 www.n1.is
Hluti af vetrinum