Skip to main content

38 tbl 2014

Page 1

Víkurfréttir

Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001

Elín Rós segir jóga eiga vel við í stjórnmálum

Er kláralega betri en pabbi gamli

bls 6

bls 19

vf.is

F IMMTUDAGUR INN 2 . O KTÓ BE R 2 0 14 • 3 8. TÖLU BLA Ð • 35. Á RGA NGU R

Málefni flugstöðvarinnar hafa verið í brennidepli sem hér er í skugga haustsólar. Ein af mörgum flugvélum að koma inn til lendingar. Mynd: Einar Guðberg

Akurskóli í Reykjanesbæ sprunginn –„Eigum við að sætta okkur við að skólalóðin fyllist af færanlegum skólastofum?,“ spyr foreldrafélagið.

H

FÍTON / SÍA

úsnæði Akurskóla í Innri Njarðvík er sprungið. Þar eru nú 460 nemendur en húsnæði skólans er hannað til að rúma með góðu móti 320 nemendur. Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri Reykjanesbæjar, segir að nú sé leitað leiða til að nýta betur húsnæði skólans og koma betur til móts við þarfir nemenda. Tveimur lausum kennslustofum hefur verið komið fyrir á lóð skólans og þriðju stofunni þarf sennilega að bæta við fyrir næsta skólaár. Þá er verið að skoða það að koma upp skilrúmum í tveimur rýmum í skólanum til að fjölga kennslurýmum þannig að betur fari um nemendur og minnka bekkjarstærðir. Foreldri barna við skólann segir í samtali við Víkurfréttir að nú sé verið að kenna 65 börnum í rými sem sé hannað til að vera með 40 börn. Það sé ekki ásættanlegt. Foreldrar barna í Akurskóla hafa verið boðaðir

einföld reiknivél á ebox.is

til fundar nk. miðvikudag, 8. október. Foreldrafélagið segir í fundarboði að „glæsilegt skólahúsnæðið rúmar ekki fyrirhugaðan fjölda nemenda sem mun hefja skólagöngu á næstu árum. Þetta þýðir að það frábæra starf sem búið er að byggja upp og fram fer í Akurskóla kemur til með að eiga undir högg að sækja. […] Eigum við að sætta okkur við að ákveðnum árgöngum verði keyrt yfir í aðra skóla? Eigum við að sætta okkur við að skólalóðin fyllist af færanlegum skólastofum? Eigum við að krefjast þess að byrjað verði á framkvæmdum við Dalsskóla?“. Gylfi Jón segir að ástandið í Akurskóla nú sé tímabundinn toppur en hliðstæða hafi orðið í Heiðarskóla sem á sínum tíma hafi verið leyst með lausum kennslustofum. Í samtali við Víkurfréttir segir Gylfi Jón að nokkrar lausnir séu til skoðunar þessa dagana og verið sé að kostnaðarmeta þær þannig að

hægt sé að kynna þær vel fyrir íbúum og pólitískum fulltrúum þannig að hægt sé að taka ákvörðun. Meðal möguleika sem hafa verið nefndir er að fjölga lausum kennslustofum við skólann, nýta laust kennslurými í Háaleitisskóla á Ásbrú, taka á leigu húsnæði í námunda við skólann og að setja niður lausar kennslustofur í Dalshverfi, þar sem íbúum er að fjölga eða flýta byggingu nýs skóla. Gylfi Jón segir alla möguleika skoðaða fordómalaust. Gylfi Jón segir að sér hugnist best lausnir fyrir börn í sínu skólahverfi, frekar en að setja upp skólaakstur með börn á milli hverfa. Næsti skóli sem mun rísa í Reykjanesbæ verður í Dalshverfi. Samkvæmt áætlunum bæjaryfirvalda er gert ráð fyrir að hann rísi innan fimm ára. Lausar kennslustofur við Akurskóla verða því væntanlega í notkunn til þess tíma. Ítarlegri frétt er á vf.is.

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Suðurnesjamenn hafa forskot á störfin í Flugstöðinni „Niðurstöður valferlisins verða til hagsbóta fyrir samfélagið á Suðurnesjum sem hefur átt undir högg að sækja. Lögð verður áhersla á að leitast við að nýta þá starfskrafta áfram sem unnið hafa í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Engin loforð hafa verið gefin en þeir starfsmenn hafa forskot á störfin. Eftir á að hyggja, í ljósi umræðunnar, hefði líklegra verið ákjósanlegra að hafa tvo valnefndarfulltrúa af fimm óháða í stað eins,“ sagði Ingimundur Sigurpálsson, stjórnarformaður Isavia, á blaðamannafundi í gær þar sem niðurstöður valferlis um viðskiptatækifæri á þjónustusvæði í flugstöðinni voru kynntar. Hlynur Sigurðsson, verkefnastjóri útboðsins sagði vopnaleitina hingað til hafa verið of hæga og haft neikvæð áhrif á upplifun farþega í flugstöðinni. „Afköst þar verða aukin og sýnileiki verslana verður eins og best verður á kosið án þess þó að það trufli farþegana. Salurinn verður ekki endurbyggður í heild, en innréttaður með íslenskum áherslum.“

ILMANDI OKTÓBER 15% afsláttur af völdum dömu og herra ilmum. Gildir frá 4. - 19. október.

Hringbraut 99 - 577 1150

Körfubolti // Fiskur // Fjölsmiðjan og fl.

Sjónvarp Víkurfrétta

Nýr þáttur á ÍNN í kvöld kl. 21:30 og 23:30


2

fimmtudagurinn 2. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR

SÚLAN

-fréttir

pósturu vf@vf.is

MENNINGARVERÐLAUN REYKJANESBÆJAR 2014 Menningarráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum vegna menningarverðlauna Reykjanesbæjar. Tilnefna skal einstakling, hóp og/eða fyrirtæki sem unnið hafa vel að menningarmálum í bænum. Tilnefningum skal skilað á skrifstofu menningarsviðs, Tjarnargötu 12 eða á netfangið: sulan@reykjanesbaer.is fyrir 8. október næstkomandi. Upplýsingar um verðlaunahafa fyrri ára og nánari reglur má finna á vef Reykjanesbæjar. Menningarráð Reykjanesbæjar

NESVELLIR

LÉTTUR FÖSTUDAGUR 3. október kl. 14. Slagkraftar Nemendur úr tónlistarskóla Reykjanesbæjar Spilabingó

Reykjanesbær frestar framkvæmdum í Helguvík R

eykjanesbær hefur frestað framkvæmdum upp á 70 milljónir króna í sem áttu að fara fram í Helguvík á þessu ári. Framkvæmdunum er frestað til næsta árs. Siglingastofnun vinnur nú að hönnun á 150 metra löngum viðlegukanti í Helguvíkurhöfn. Gert er ráð fyrir að ráðast verði í þá framkvæmd á næsta ári. Ekki eru til peningar til að fara í þá framkvæmd sem er nauðsynleg

vegna uppbyggingar kísilvera í Helguvík. „Þegar hafa verið teknar ákvarðanir um að fresta framkvæmdum sem voru fyrirhugaðar á þessu ári yfir til næsta árs. Viðlegukanturinn sem um ræðir er nauðsynlegur vegna uppbyggingar á kísilverunum tveim en það er ljóst að við munum fresta þessari vinnu eins lengi og við getum og þar til peningar koma inn. Við höfum ekki

Saga Lundans

Allir velkomnir

HEILSU- OG FORVARNARVIKA Í REYKJANESBÆ Heilsu- og forvarnarvikan er í fullum gangi til sunnudags. Fullt af fróðlegum og skemmtilegum viðburðum. Kynnið ykkur dagskrána á reykjanesbaer.is og á facebooksíðu Reykjanesbæjar.

DAGSKRÁ FRAMUNDAN Í

HLJÓMAHÖLL

MIÐ-ÍSLAND - 9. október í Stapa - Örfáir miðar lausir KK - 10. október í Bergi - Örfáir miðar lausir ÁRSTÍÐIR - 23. október í Bergi - Miðasala hafin MIÐASALA Á HLJOMAHOLL.IS

SNJÓMOKSTUR OG HÁLKUEYÐING Reykjanesbær óskar eftir verktökum til að taka þátt í snjómokstri og hálkueyðingu á götum og gangstígum í Reykjanesbæ. Verktími 1. nóvember 2014 til 1. maí 2018. Áhugasamir sendi inn upplýsingar um þann tækjakost sem þeir ætla að nota við verkið á netfangið bjarni. karlsson(hja)reykjanesber.is fyrir 20. október 2014.

fjármagn sem stendur til að fara í framkvæmdir,“ sagði Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í síðustu viku. „Við vitum það að við höfum skyldum að gegna við þessi kísilver sem eru að koma. Við munum ekki fara út í neinar framkvæmdir nema þær séu virkilega bráðnauðsynlegar. Það er alveg ljóst“.

Páll Ketilsson hlaut Lundann 2014 P

áll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, hlaut Lundann 2014 en það er viðurkenning sem Kiwanisklúbburinn Keilir í Reykjanesbæ veitir á hverju ári og hefur gert frá árinu 2002. Verðlaunagripurinn er uppstoppaður lundi sem er afhentur þeim einstaklingi sem þykir hafa látið gott að sér leiða eða unnið óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins, bæjarbúa eða bæjarfélagsins. Kiwanisfélagar efna á hverju hausti til Lundafagnaðar í KK-salnum í Reykjanesbæ þegar viðurkenningin er veitt og var nú sl. föstudagskvöld. Ragnar Örn Pétursson, formaður fræðslunefndar Keilis sagði að nefndinni hefðu borist fjölmargar tillögur um einstaklinga sem voru vel að því komnir að fá þessi verðlaun.

Páll er eigandi Víkurfrétta en fyrirtækið fagnaði þrjátíu ára afmæli í fyrra. Hjá VF starfa um tíu manns og það gefur út samnefnt vikublað á Suðurnesjum, heldur úti fréttavefnum vf.is og golfvefnum kylfingur.is sem og vikulegum sjónvarpsþætti. Þá hefur Páll ritstýrt tímariti Golfsambands Íslands, Golf á Íslandi, í rúman áratug. Páll sagði í stuttri ræðu eftir afhendinguna að lykill að velgengi fyrirtækisins lægi í mannauði þess en sagði líka að góð tenging við íbúa og samstarf við lesendur og áhorfendur hefði mikið að segja. Hann þakkaði Kiwanismönnum fyrir viðurkenninguna og sagði þá vinna ómetanlegt starf í félags- og líknarmálum en klúbburinn hefur m.a. í langan tíma selt jólatré og nýtt afraksturinn til líknarmála á hverju ári.

Verður „Slökkvilið Suðurnesja“ að veruleika?

G

rindavíkurbæ hefur verið boðið til viðræðna um stofnun byggðasamlags um Brunavarnir Suðurnesja. Aðildarsveitarfélög Brunavarna Suðurnesja eru Reykjanesbær, Sveitarfélagið Garður og Sveitarfélagið Vogar. Sandgerðisbæ hefur einnig verið boðið til viðræðna um aðild að stofnun byggðasamlags um brunavarnir á Suðurnesjum. Bæjarráð Grindavíkur afgreiddi málið með því að fresta því til næsta fundar.

XXLundinn var fyrst afhentur árið 2002 og þá hlutu hann þeir Vilhjálmur Þorleifsson og Óskar Ívarsson, starfsmenn áhaldahúss Reykjanesbæjar, en þeir höfðu unnið í áratugi við að fegra bæinn. Árið 2003 hlaut Lundann Ólafur Oddur Jónsson heitinn, sóknarprestur í Keflavíkursókn sem í mörg ár hélt uppi umræðum og fræðslu gegn sjálfsvígum. Tómas Knútsson hlaut Lundann árið 2004 en Tómas setti á fót Bláa herinn sem hefur unnið ötullega við að hreinsa strandlengjuna og þá hefur hann stjórnað Sportköfunarskóla Íslands. Steinþór Jónsson hótelstjóri á Hótel Keflavík og bæjarfulltrúi hlaut Lundann fyrir árið 2005. Steinþór var upphafsmaður að lýsingu Bergsins og síðan hátíðinni Ljósanótt sem fylgdi í kjölfarið. Árið 2006 hlaut Sigfús B. Ingvason prestur í Keflavík Lundann. Árið 2007 hlaut Erlingur Jónsson Lundann. Erlingur hefur látið til sín taka í forvarnarstarfi í Reykjanesbæ og hefur ritað ófáar greinar um skaðsemi eiturlyfja. Árið 2008 hlaut Lundann Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir forstöðumaður í Björginni – Geðræktarmiðstöð Suðurnesja. Árið 2009 hlaut Karen J. Sturlaugsson aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar Lundann. Lundann 2010 hlutu Halldór Halldórsson og Haraldur Haraldsson úr rústabjörgunarsveit Landsbjargar og félagar í Björgunarsveit Suðurnesja. Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis hlaut Lundann árið 2011. Keilir miðstöð vísinda,fræða og atvinnulífs er eitt af óskabörnum Suðurnesjamanna sem varð til við brotthvarf varnarliðsins árið 2006. Árið 2012 hlaut Þórarinn Ingi Ingason f lugstjóri hjá Landhelgisgæslunni Lundann. Árið 2013 hlaut Arnór Vilbergsson, organisti og kórstjóri við Keflavíkurkirkju Lundann. Arnór hefur verið driffjöðrin í mjög öflugu kóra-og tónlistarstarfi.


Til hamingju Reykjanes Nú er stór hluti Reykjanesbæjar kominn á 4G þjónustusvæði Vodafone – það stærsta á landinu. Við kynnum um leið með stolti nýjan umboðsmann Vodafone í Reykjanesbæ: Tölvulistann, Hafnargötu 90 í Keflavík. Þar geta Suðurnesjamenn nú fengið fyrsta flokks fjarskiptaþjónustu. Verið velkomin! Vodafone

Góð samskipti bæta lífið


4

fimmtudagurinn 2. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-fréttir

pósturu vf@vf.is

Gatnagerðargjöld lækki tímabundið um 30%

Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra með skylda sjúkdóma Kaffihúsa-spjall og pönnukökur! Tenglar FAAS á Suðurnesjum halda 1. fræðslufund vetrarins, þriðjudaginn 7. október 2014, kl. 16:30 í Selinu, Vallarbraut 4 (Njarðvík), Reykjanesbæ. Helga Hansdóttir öldrunarlæknir verður með fræðslu um byltur/dettni. • Ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir minnisskerta og þeirra aðstandendur. • Fyrirspurnir og umræður. Allir velunnarar FAAS ásamt öllu áhugafólki um málefni félagsins velkomnir Við hvetjum fólk til að láta sig málið varða, styðja þannig við félagið og fá fræðslu um minnisskerðingu/heilbilun á heimaslóðum. Kaffiveitingar á staðnum, enginn aðgangseyrir en frjáls framlög upp í kostnað eru vel þegin. Kveðja FAAS tenglar á Suðurnesjum

F.v. Jón Eysteinsson, Ólafur Helgi Kjartansson, Jón Eysteinsson og Ásgeir Eiríksson.

■■Afhentu Sögu lögreglunnar í Keflavík:

Lögreglumannatalið mikilvægt

Syngdu mig heim

Söngskemmtun í tilefni aldarafmælis Jóns frá Ljárskógum Grindavíkurkirkju föstudaginn 3. okt. kl. 20:00

Einvala lið tónlistarmanna flytur mörg þekktustu söngljóð skáldsins, þar á meðal nokkur sem M.A.-kvartettinn gerði fræg á sínum tíma Einsöngslög, dúettar, kvartett og kór við dunandi undirspil ásamt stiklum úr lífi þessa merka listamanns Fjölbreytt dagskrá þar sem sönggleðin ræður ríkjum

! !

Aðgangseyrir kr. 2.000 Enginn posi – Allir velkomnir

„Með því merkilegasta í þessari bók er lögreglumannatalið,“ sagði Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, eftir að hafa blaðað í gegnum Sögu lögreglunnar í Keflavík sem Jón Eysteinsson, fyrrverandi sýslumaður, afhenti honum á mánudag. Við afhendinguna voru einnig staddir Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og Ásgeir Eiríksson, fulltrúi sýslumanns. Auk um 100 blaðsíðna lögreglumannatals eru í bókinni reynslusögur fjölda lögreglumanna úr starfi, umfjöllun um sögu lögreglunnar og fjöldi mynda. Einar Ingimundarson tók saman efni og ritaði en fyrrum og núverandi fé-

lagar Lögreglufélags Suðurnesja hafa verið í ritnefnd og hefur félagið stutt við útgáfu bókarinnar. Í henni er rakin saga lögreglunnar í Keflavík í máli og myndum. Hún er góð heimild um líf og störf lögreglumanna og er þar að finna mikinn fróðleik um lögregluna áður fyrr og fram til ársins 2007. Bókin er í prentun en hægt er að panta hana í forsölu á sérkjörum fram til 7. nóvember í gegnum netfangið logreglufelag@dc.is en eftir það verður hún aðeins dýrari. Kynning á útgáfunni fer fram í Bókasafni Reykjanesbæjar Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ, föstudaginn 7. nóvember kl. 16-18 og eru lögreglumenn hvattir til að mæta.

XXUmhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar leggur til að á árinu 2015 verði gjaldskrá gatnagerðargjalda í Reykjanesbæ lækkuð tímabundið um 30%. Þetta kem fram á síðasta fundi nefndarinnar. Lækkun gjaldanna gæti orðið til þess að örva byggingaframkvæmdir í Reykjanesbæ á nýjan leik. Í tillögunni segir að lækkunin gildi tímabundið á árinu 2015 en þá taki fyrri gjaldskrá gildi að nýju nema annað verði ákveðið. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir tillöguna samhljóða og vísar henni til umfjöllunar bæjarráðs samhliða vinnu við fjárhagsáætlun 2015.

Grindvíkingar hafna 62 metra hárri vindmyllu XXSkipulags- og umhverfisnefnd Grindavíkur hefur hafnað erindi um uppbyggingu vindmyllu á Stað við Grindavík. Í erindi frá Biokraft er lýst áætlunum um uppbyggingu vindmyllu á Stað. Mastur vindmyllunnar er 40 m, þvermál blaðahrings er 44 m og mun mannvirkið því ná 62 m hæð. Skipulags- og umhverfisnefnd telur mannvirkið ekki falla vel að þeirri náttúru sem er í nágrenni Grindavíkur og hafnar erindinu.

Vilja Landhelgisgæsluna til Reykjanesbæjar – Þingmenn Suðurkjördæmis meðflutningsmenn tillögunar

Tillaga að Aðalskipulagi Garðs 2013-2030 Bæjarstjórn hefur samþykkt að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Garðs 2013-2030 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Aðalskipulag sveitarfélagsins Garðs mótar stefnu um landnotkun í sveitarfélaginu og reglur fyrir margvíslega málaflokka s.s. þróun íbúðarbyggðar, afmörkun nýrra atvinnusvæða, samgöngur, legu raflína, menningar- og náttúruvernd og óbyggð svæði. Tillaga að aðalskipulagi, ásamt umhverfisskýrslu og svörum við ábendingum sem komu fram á vinnslustigi verður aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, www.svgardur.is, frá og með 2. október. Skipulagstillagan og umhverfisskýrsla verða til sýnis á bæjarrskrifstofum, Sunnubraut 4, 250 Garður og hjá Skipulagsstofnun á Laugarvegi 166 í Reykjavík. Ábendingar og athugasemdir við aðalskipulagstillögu skal senda til bæjarstjóra á netfangið magnusstefansson@svgardur.is. Einnig er hægt að senda athugasemdir merktar Aðalskipulag Garðs á póstfangið, Sveitarfélagið Garður, Sunnubraut 4, 250 Garður. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til mánudagsins 17. nóvember 2014. Bæjarstjórn vonast til þess að sem flestir kynni sér þá stefnumörkun um landnotkun sem unnin hefur verið og þær áherslur og aðgerðir sem talið er nauðsynlegt að ráðast í á næstu árum til að ná settum markmiðum. Magnús Stefánsson, bæjarstjóri

S

ilja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi leggur í annað sinn fram þingsályktunartillögu á Alþingi þess eðlis að hefja undirbúning á flutningi Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar. Meðflutningsmenn með frumvarpinu eru einnig Suðurnesjaþingmennirnir; Páll Valur Björnsson, Páll Jóhann Pálsson, Oddný G. Harðardóttir og Ásmundur Friðriksson. Að mati flutningsmanna fylgja fjölmargir kostir því að flytja alla starfsemi Landhelgisgæslunnar á Suðurnesin, nánar tiltekið á öryggissvæðið á Ásbrú, en nú þegar er Landhelgisgæslan með umfangsmikla starfsemi á svæðinu og þúsundir fermetra af vannýttu húsnæði. Það fylgir því mikil hagræðing að hafa alla starfsemina á einum stað og þjónusta og öryggi munu einnig aukast þar sem viðbragðstími Landhelgisgæslunnar styttist með því að færa alla starfsemi hennar. Einnig mun flugfloti gæslunnar komast í gott framtíðarhúsnæði sem uppfyllir öryggisstaðla. Á öryggissvæðinu

á Keflavíkurflugvelli er til staðar afar heppileg aðstaða fyrir alla starfsemi Landhelgisgæslunnar til framtíðar. Þar er húsnæði, flugbrautir, góð hafnaraðstaða og stoðkerfi sem fullnægir þörfum Landhelgisgæslunnar að öllu leyti. Enn fremur segir í tillögunni að mannvirkin sem um ræðir á öryggissvæðinu séu nú þegar í rekstri Landhelgisgæslunnar og með því að nýta þau betur undir starfsemi gæslunnar næðist mikil fjárhagsleg hagræðing fyrir ríkið til lengri tíma. Óverulegar breytingar þarf að gera á þessum byggingum svo þær henti starfsemi gæslunnar og í þessu samhengi er rétt að benda á ábyrgð ríkisins gagnvart Mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins varðandi viðhald og rekstur mannvirkjanna. Í tilögunni er það nefnt að með flutningi til Suðurnesja fengi Landhelgisgæslan gott framtíðarhúsnæði og stórbætta aðstöðu. „Á svæðinu er einkar góð hafnaraðstaða: Njarðvíkurhöfn, Keflavíkurhöfn og Helguvíkurhöfn. Nú þegar ber Landhelgisgæslan

ábyrgð á rekstri hluta Helguvíkurhafnar, þ.e. þess hluta sem er á eignaskrá Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins. Úttekt á nauðsynlegum breytingum á hafnaraðstöðu liggur fyrir (2009). Njarðvíkurhöfn getur strax tekið við skipaflota Landhelgisgæslunnar og Helguvíkurhöfn kemur einnig til greina. Landhelgisgæslan rekur nú þegar öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli og fer með framkvæmd öryggis- og varnartengdra verkefna, auk þess sem sprengjueyðingarsveitin hefur aðstöðu á svæðinu. Þess má einnig geta að sérsveit ríkislögreglustjóra er með aðstöðu á öryggissvæðinu og hópar á vegum lögreglu og Lögregluskólans æfa þar. Með flutningi Landhelgisgæslunnar á Suðurnes mundi ríkisvaldið gera Landhelgisgæsluna að enn öflugri stofnun til hagsbóta fyrir landsmenn alla, aðstaðan fyrir starfsemina yrði mun betri og tryggð til framtíðar og síðast en ekki síst mundi flutningurinn styðja við atvinnuuppbyggingu á svæðinu öllu,“ segir í ályktunni.


Rauðir dagar 6.-10. október

Það eru Rauðir dagar hjá Íslandsbanka alla næstu viku þar sem við leggjum sérstaka áherslu á að kynna nýjungar í þjónustu sem létta þér lífið.

Þú gætir unnið iPhone 6 Komdu í kaffi til okkar á Hafnargötuna og lærðu að nýta þér Íslandsbanka Appið. Allir sem nota Appið í október fara í pott og geta unnið iPhone 6. Kynntu þér dagskrá og viðburði Rauðra daga á islandsbanki.is

Fylgstu með okkur á Facebook: facebook.com/Islandsbanki.Reykjanesbae

islandsbanki.is

Netspjall

Sími 440 4000

Facebook

Kaffi og kleinur Miðvikudaginn 8. október kl. 11 bjóðum við upp á kaffi og kleinur í útibúinu við Hafnargötu. Komdu í kaffisopa og hittu ráðgjafana okkar.


6

fimmtudagurinn 2. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-ritstjórnarbréf

-viðtal

pósturu vf@vf.is

Olga Björt Þórðardóttir skrifar

Komin til að vera Fjölsmiðjan á Suðurnesjum var stofnuð fyrir fjórum árum og eru starfsmenn hennar þrír. Hún er atvinnutengt úrræði fyrir ungt fólk á krossgötum sem hefur flosnað upp úr námi eða vinnu. Unga fólkinu er hjálpað við að finna sér farveg í lífinu og byggja sig upp fyrir framtíðina. Virðing og umburðarlyndi eru lykilorð Fjölsmiðjunnar er unnið er úr frá þeim. Þorvarður Guðmundsson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum, segir í viðtali í nýjasta tölublaði Víkurfrétta að hún hafi meiri þýðingu fyrir samfélagið nú en nokkurn tímann áður. 18 - 19 krakkar nýta sér úrræðin og stefnt er að því að fjölga þeim í 30. „Einn skjólstæðinga okkar sagði að ef hann væri ekki hér þá væri hann heima í tölvuleik. Við krefjum krakkana um virkni, hringjum í þau ef þau eru ekki mætt og sækjum þau jafnvel.“ Rekstur Fjölsmiðjunnar snýst mikið um starfsemi Nytjamarkaðarins við Smiðjuvelli í Reykjanesbæ. Markaðurinn hefur að sögn Þorvarðar gengið vel og opnunartíminn verið lengdur á fimmtudögum til klukkan sex. Viðskiptavinir hafi haft það á orði að vörurnar þar séu ódýrari en hjá Góða hirðinum, hins þekkta nytjamarkaðar í Reykjavík. Alltaf vanti þó vildarvini Fjölsmiðjunnar, einstaklinga sem vilji láta gott af sér leiða, og einnig ábendingar um góð verkefni sem ungmenni geti tekið að sér. Í vor var ráðinn atvinnuráðgjafi til Fjölsmiðjunnar, Helga María Finnbjörnsdóttir, og ungmennin fá ákveðinn tíma með henni þar sem þau setjast niður og ræða málin, hvort sem það er eitthvað sem þau glíma við í persónulegu lífi sínu eða annars staðar. „Ég skoða með þeim hvað vantar upp á til þess að þau geti farið á almennan vinnumarkað eða í nám. Í því felst m.a. markmiðasetning og ýmis konar fræðsla,“ segir Helga María. Helga María og Þorvarður eru sammála um að gott sé að starfa við það að efla færni, þroska og sjálfsöryggi ungs fólks. Einnig að hafa möguleika á gera samfélaginu gott og vera hluti af einhverju góðu. Fjölsmiðjan sé sannarlega komin til að vera.

-instagram

#vikurfrettir

Mynd: Dóra Ársælsdóttir

vf.is

SÍMI 421 0000

Ævintýramanneskja sem þarf reglulega tilbreytingu í lífið Elín Rós segir jóga eiga vel við í stjórnmálum

E

lín Rós Bjarnadóttir skaust fram á sjónarsviðið í vor, þegar hún vann sæti í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Hún var í öðru sæti í nýju framboði Frjálsu afli sem náði tveimur mönnum inn. Hún segir upphafið á stjórnmálaferlinum hafa gengið vel og hlakkar hana til þess að takast á við spennandi verkefni. Elín, sem er uppalin í Keflavík, álpaðist inn í pólitíkina eftir að hún fékk símtal frá forystumönnum Frjáls afls sem buðu henni sæti á lista flokksins. Hún hafði aldrei áður komið nálægt stjórnmálum og tók sér því smá umhugsunarfrest. Hún var stödd á ákveðnum tímamótum og var tilbúin að takast á við ný verkefni. Hún ákvað því að láta slag standa og ögra sjálfri sér. „Mig langaði einfaldlega að prófa eitthvað nýtt. Það er nú bara þannig að þegar þú lokar einum dyrum þá opnast aðrar. Ég hef alltaf verið ævintýramanneskja sem þarf reglulega tilbreytingu í lífið. Ég er ekkert hrædd við það að prófa eitthvað nýtt, maður lifir bara einu sinni,“ segir Elín. Elín er menntaður grunnskólakennari en hún starfaði í Akurskóla frá árinu 2006 þar sem hún kenndi m.a. stærðfræði og jóga. Hún hætti störfum við skólann í vor og starfaði sem flugfreyja í sumar. Hún er um þessar mundir að kenna jóga í Sporthúsinu en hún segir jóga eiga afar vel við stjórnmálin. „Þetta fer rosalega vel saman. Maður lærir að anda inn og anda út. Maður lærir að hafa stjórn á sinni líðan og ekki að taka hluti of mikið inn á sig.“

Aðspurð að því hvort hún sé stærðfræðinörd þá skellir hún upp úr. „Nei ég myndi nú ekki segja það. Mér finnst þó gaman að sitja bara og reikna. Ég get alveg gleymt mér við það tímunum saman,“ segir Elín. Þrátt fyrir að vera ævintýramanneskja þá er Elín lítið fyrir það að stunda jaðaríþróttir eins og fallhlífarstökk og þess háttar, hún vill síður stofna lífi sínu í hættu. Hún á mörg áhugamál en ferðalög og útivera eru þar efst á lista, en hún segir útiveru róa hugann. Eins hefur hún gaman af samverustundum með fjölskyldunni og jóga. Elín og Hreiðar maðurinn hennar reka líflegt heimili í Innri-Njarðvík en þau eiga fjögur börn, og segir Elín heimilið oft og tíðum minna á lestarstöð, sérstaklega þegar skóladegi barnanna líkur. Ætlar að gefa stjórnmálunum tækifæri Elínu finnst bæjarmálin skemmtileg enn sem komið er. Henni hefur

verið vel tekið og er hún sífellt að læra meira í stjórnmálunum. „Mér finnst þetta hafa farið mjög vel af stað og allir hafa tekið vel á móti manni. Auðvitað kemur upp ágreiningur um sum mál og það er bara í góðu lagi. Við erum fólk með ólíkar skoðanir og eigum að láta þær í ljós. Við ræðum málin og svo er það meirihlutinn sem ræður, þannig er nú lýðræðið,“ segir Elín létt í bragði. Hún segir ekki margt hafa komið sér á óvart en hún sé sífellt að læra meira með hverjum deginum. „Þetta er samt mun stærra batterí en ég gerði mér grein fyrir, það er svo margt sem heyrir undir bæinn.“ En sér hún fyrir sér að endast lengi í stjórnmálum? „Ég ætla að gefa þessu tækifæri. Ég er svo nýbyrjuð og kannski erfitt að leggja mat á það núna. Ég ætla að leyfa þessu að þróast og sjá svo hvert lífið leiðir mig.“

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.


L&H-Nicotinell 3-20%-Vikurfrettir copy.pdf

1

26/09/14

12:03

Lyfjaauglýsing

20% afsláttur Gildir í október

Landsbyggðin Glerártorg Akureyri Hrísalundur Akureyri Dalvík

Höfuðborgarsvæðið Austurver

Hella

Domus Medica

Hveragerði

Eiðistorg

Hvolsvöllur

Fjörður

Keflavík

Glæsibær

Selfoss

Hamraborg

Vestmannaeyjar

JL-húsið

Þorlákshöfn

Kringlan


8

fimmtudagurinn 2. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal

NÁMSKEIÐ Í HLJÓMASLÆTTI Á KASSAGÍTAR Námskeiðið er ætlað byrjendum og lengra komnum. Kennt í litlum hópum, 1 klst. í senn á fimmtudögum í 8 vikur. Takmarkað pláss, því fáir hópar verða í boði. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 9. október n.k. Kennari er Þorvaldur Már Guðmundsson

NÁMSKEIÐ Í RAFGÍTARLEIK Námskeiðið er ætlað byrjendum og lengra komnum. Kennt í litlum hópum, 1 klst. í senn á miðvikudögum í 8 vikur. Takmarkað pláss, því fáir hópar verða í boði. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 15. október nk. Kennari er Ásgeir Aðalsteinsson

NÁMSKEIÐ Í HLJÓMBORÐS- OG PÍANÓLEIK Námskeiðið er ætlað byrjendum og lengra komnum. Kennt í einkatímum, 1 klst. á viku í 6 vikur. Takmarkaður nemendafjöldi. Námskeiðið hefst í kennsluvikunni 13. – 16. október Kennari er Steinar Guðmundsson

INNRITUN Innritun á námskeiðin stendur yfir til og með miðvikudeginum 8. október n.k. frá kl.13-17 á skrifstofu skólans Hjallavegi 2 eða í síma 420-1400 Kennsla á öllum námskeiðunum fer fram í Tónlistarskólanum Hjallavegi 2 Reykjanesbæ Skólastjóri

ATVINNA Íslandspóstur Keflavík óskar eftir gjaldkera. Starfið felst m.a. í afgreiðslu o.fl. Vinnutími er frá kl. 8:45-17:00 alla virka daga. Umsækjandi þarf að búa yfir ríkri þjónustulund, samviskusemi og nákvæmni í vinnubrögðum. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 15. október 2014. Hægt er að sækja um á heimasíðu Póstsins www.postur.is

Störf hjá IGS 2014 Við bjóðum fjölbreytileg og skemmtileg störf í spennandi umhverfi flugheimsins. IGS ehf. vill ráða fólk til vinnu. Um er að ræða störf við ræstingu í flugeldhúsi félagsins á kvöldin. Áhersla er lögð á reglusemi, stundvísi og árvekni. Lágmarksaldur 20 ára, almenn ökuréttindi skilyrði, íslensku- og/eða enskukunnátta. Umsóknarfrestur til 9. október 2014 Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS www.igs.is

pósturu vf@vf.is

Samningar fæla nemendur frá iðnnámi - ansi hart ef að vinnumarkaður er orðinn hræddur við að of margir séu í faginu, segir Kristján Ásmundsson, skólamesitari Fjölbrautaskóla Suðurnesja

K

ristján Ásmundsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja telur að breyta verði kerfinu í iðnnámi en aðsókn í það hefur minnkað verulega á landinu öllu. Undanfarið hefur talsvert verið fjallað um nemendur sem stunda iðnnám og erfiðleika þeirra við að komast á samning. Í FS sé aðsóknin þó svipuð og í fyrra í verkog starfsnámi. „Nemendur sem vilja læra hárgreiðslu komast að öllum líkindum ekki á samning. Það fælir nemendur frá náminu þegar þeir standa frammi fyrir því að geta ekki lokið sínu námi.“ Kristján hefur áhyggjur af viðhorfi vinnumarkaðarins. „Eitthvað verður að gera. Það er orðið ansi hart ef að vinnumarkaður er orðinn hræddur við að of margir séu í faginu og að markaðurinn beri ek ki alla starfsnemana.“ Hafa misst samning vegna verkefnaskorts Kristján segist vita til þess að iðnnemar í trésmíði hafi jafnvel misst samning sinn einfaldlega vegna þess að ekki voru nægileg verkefni til staðar. Þá hafi fyrirtæki veigrað sér við því að taka inn nema vegna þess að þau sáu ekki fram á að hafa nægileg verkefni fyrir nemana allan námstímann. Kristján sér fyrir sér að nemar þurfi ekki að taka allan samningstímann hjá sama aðilanum heldur gætu þeir farið á milli fyrirtækja og starfað í skemmri tíma. „Svo þegar hjólin fara að snúast þá eru einfaldlega ekki til nægilega margir smiðir. Það hafði ekki verið hægt að mennta þá vegna þess að þeir komust ekki á samning. Þá var enginn að sækjast í það að læra smíðar. Um leið og framkvæmdir í byggingariðnaði minnkuðu þá hrapaði aðsóknin í

-fréttir

smíðar, þær eru hvað viðkvæmastar fyrir þessum sveiflum,“ segir Kristján. „Þetta er bara það sem við fáum úr að spila og verðum að lifa með því“ Fjölbrautaskóli Suðurnesja er ódýrasti blandaði framhaldsskólinn á landinu, sem er þá með bæði verklegt nám, bóklegt og starfsbrautir. Ef rýnt er í þá fjármuni sem skólinn er að fá kemur í ljós að samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2015 dragast ígildi nemenda saman um 42 og því verða 882 ígildi á næsta skólaári. Þegar talað er um ígildi er miðað við nemendur í fullu námi sem skila 17,5 einingum á önn. „Þetta er bara það sem við fáum úr að spila og verðum að lifa með því,“ segir skólameistarinn. Kristján seg-

ist reglulega kvarta til yfirvalda um aukið fé en sjaldan verði hann var við viðbrögð. „Það er eitt að kvarta en annað að fá skýringu á þessu, ég hef ekki fengið nein svör sem ég er að kaupa. Við hefðum vissulega viljað fá meiri framlög á hvert ígildi nemanda.“ Kristján segir árganga einnig vera að minnka og svo verði áfram næstu ár. Flestallir sem sóttu um fengu skólavist komust að núna, nema þeir sem ekki hafa verið að skila síðustu annir og hafa jafnvel sagt sig úr námi. Eins fá margir sem eru yfir 25 ára aldur ekki inn í skólann, yngri nemendur ganga fyrir. Þeir sem eldri eru er bent á önnur úrræði til þess að ljúka framhaldsskólanámi. Kvöldskóli sem sóttur var af eldri nemendum var lagður niður fyrir nokkrum árum í FS en það kom til vegna niðurskurðar og sparnaðar. Nú sækja þeir nem-

endur t.d. til Keilis á háskólabrú, MSS eða álíka aðila. Kristján segir að víða sé verið að skera niður og m.a. í fjarnámi í framhaldsskólum, en þá þjónustu nýta eldri nemendur einnig í miklum mæli. Færri komast að en vilja á hraðbraut Það er breiður hópur nemenda sem sækir FS. Segja mætti að talsvert sé í boði fyrir alla þá flóru. Meðal þess sem boðið er upp á er afreksbraut, eins konar hraðbraut þar sem nemendur geta lokið stúdentsprófi á styttri tíma en ella. Boðið hefur verið upp á þennan kost í stuttan tíma en Kristján segir hraðbrautina vera að festa sig í sessi, nú komist færri að en vilja. Núna stunda um 25 nemendur nám í skólanum á þessari braut og klára þá nám á þremur eða þremur og hálfu ári. Eins er u nemendur í grunnskólum á Suðurnesjum duglegir að sækja tíma í Fjölbrautaskólanum. Kristján segir rúmlega 100 manna hóp grunnskólanema sækja tíma í skólanum á þessari önn og sækja sér einingar. „Að okkar mati þá skiptir þetta miklu máli. Þarna er mikil hvatning fyrir nemendur að takast á við meira krefjandi efni.“ Gott samstarf við grunnskóla Ágætis samstarf er milli FS og grunnskóla á svæðinu. Reglulega er fundað og farið yfir stöðuna til að minnka megi þrepið á milli grunn- og framhaldsskólanáms. Kristján segir að FS taki saman og greini einkunnir nemenda á fyrsta ári eftir grunnskólum á svæðinu. Síðan hafa niðurstöðurnar verið afhentar stjórnendum grunnskólanna, til þess að þeir geti séð hvernig þeirra nemendur eru að koma undirbúnir í framhaldsskóla. Þetta hefur verið við lýði undanfarin tvö ár og reynst mjög vel enda sé það sameiginlegt markmið að efla skólastarf á svæðinu.

pósturu vf@vf.is

Vel mætt á Opel sýningu F

jöldi fólks lagði leið sína í útibú Bílabúðar Benna, við Njarðarbraut 9 í Reykjanesbæ um sl. helgi. Tilefnið var vegleg sýning á Opel bílum sem Bílabúð Benna hefur nú umboð fyrir á Íslandi. „Viðtökurnar voru frábærar og mikil ánægja er hér á bæ með hvernig til tókst. Til okkar mættu nokkur hundruð manns, bæði til að forvitnast um nýjustu bílana frá Opel og samfagna okkur með þessi tímamót. Við væntum mikils af þessu nýja vörumerki og miðað við móttökurnar um helgina er ljóst að Opel á spennandi framtíð fyrir höndum hér á Suðurnesjum,“ segir Svavar Grétarsson, sölumaður Opel í Reykjanesbæ. Fjöldi fólks lagði leið sína á Opel sýningu hjá Bílabúð Benna.


PIPAR \ TBWA •

SÍA •

143027

9 9 7 . 1 kr. svooogott

™

FAXAFENI • GRAFARHOLTI • SUNDAGÖRÐUM HAFNARFIRÐI • KÓPAVOGI • MOSFELLSBÆ REYKJANESBÆ • SELFOSSI

WWW.KFC.IS


KasK ∙ Ká ∙ KB ∙ Kea ∙ KffB ∙ Kh ∙ KhB ∙ KsK ∙ Kþ

þú færð afsláttinn gegn framvísun félagsmannakortsins

doce gusto kaffivél verð áður 34.995,-

24.497,-

Magig vac vacum vél verð áður 24.998,-

17.499,-

frystiKista whirpool 311 lítra verð áður 99.995,-

69.997,-

lg sjónvarp 42” verð áður 129.995,-

90.997,-

tilBoð til félagsManna!

safapressa philips 500w verð áður 17.995,-

síMi þráðlaus philips Dect verð áður 5.995,-

Keylujárn remington verð áður 7.495,-

raKvél remington verð áður 10.995,-

12.597,-

5.247 ,-

4.197,-

7.697,-

30% ÖlluM afsláttur af raftæKjuM

BartsKeri remington verð áður 7.995,-

5.597,-

straujárn russel hobbs verð áður 10.995,-

7.697,-

sléttujárn remington verð áður 8.995,-

6.297,-

tilboðin gilda í: nettó reykjanesbæ | nettó grindavík | nettó borgarnesi | nettó akureyri | nettó egilsstöðum | nettó selfossi | nettó höfn | Úrval blönduósi | Úrval Ólafsfirði | Úrval Dalvík | Úrval hafnafirði | Úrval neskaupstað


ð

FÉLAGSMANNATILBOÐ

30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM RAFTÆKJUM

panasonic sjónvarp 50” verð áður 189.995,-

132.997,-

Blandari philips 600w verð áður 14.995,-

10.497,-

eldhúsútvarp philips m/stoðvaminni verð áður 12.995,-

Kaffivél philips 1000w verð áður 6.995,-

gufusjóðari home&cook verð áður 12.495,-

eggjasjóðari stylo egg verð áður 7.995,-

Kaffivél russel hobbs verð áður 11.995,-

hárBlásari remington verð áður 5.495,-

eggjasuðuvél stylo egg boiler verð áður 7.995,-

KælisKápur whirpool 187 cm verð áður 104.995,-

þurrKari whirpool - barkalaus verð áður 99.995,-

þvottavél whirpool 7 kg verð áður 99.995,-

8.747,-

5.597,-

5.597,-

73.497,-

9.097,-

8.397,-

69.997,-

4.897,-

3.847,-

69.997,-

MiKið úrval! - tilboðin gilda 2.-8. okt 2014


12

fimmtudagurinn 2. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal

pósturu olgabjort@vf.is

Þorvarður Guðmundsson, Helga María Finnbjörnsdóttir og Sigurgeir Tómasson.

■■Rými fyrir alla hjá Fjölsmiðjunni á Suðurnesjum. Hefur meiri þýðingu fyrir samfélagið en nokkru sinni fyrr:

Velja Fjölsmiðjuna framyfir tölvuleiki „Fjölsmiðjan hefur meiri þýðingu fyrir samfélagið en nokkurn tímann áður. Einn skjólstæðinga okkar sagði að ef hann væri ekki hér þá væri hann heima í tölvuleik. Við krefjum krakkana um virkni, hringjum í þau ef þau eru ekki mætt og sækjum þau jafnvel,“ segir Þorvarður Guðmundsson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum. Skjólstæðingum fjölgar 18-19 krakkar nýta sér úrræði Fjölsmiðjunnar og stefnt er á að þeim fjölgi í 30. Þeir koma í gegnum félagsþjónustur sveitarfélaganna á Suðurnesjum og frá Vinnumálastofnun. „Við aðstoðum þá í virkri atvinnuleit. Þetta er mjög einstaklingssniðið hjá okkur úr frá því hvar hver er staddur. Stundum er gerður vinnustaðasamningur. Þá eru þau kannski þrjá daga á vinnustað og tvo hjá okkur. Þá sleppum við þeim ekki alveg frá okkur og þau eru þá tilbúnari og geta tekið upp þráðinn aftur. Sum koma aftur því að fyrirkomulagið hentaði ekki. Allir ná í reynslu og sumir jafnvel meðmæli. Þetta verður markvissara núna með aðkomu atvinnuráðgjafans,“ segir Þorvaldur. Efla styrk og sjálfsöryggi Atvinnuráðgjafi hjá Fjölsmiðjunni er Helga María Finnbjörnsdóttir. „Ég fylgi krökkunum eftir því markmiðið er að krakkarnir fari héðan og komist í starf eða nám annars staðar. Ég skoða með þeim hvað vantar upp á til þess að þeir geti farið á almennan vinnumarkað eða í nám. Í því felst markmiðasetning, fræðsla á okkar vegum og annarra, t.d. innhverf íhugun, hamingjufyrirlestur og skyndi-

hjálp. Einnig fræðum við þá um réttindi og skyldur á vinnumarkaði og upplýsingatækni. Við eflum þau svo að þau finni styrk hjá sér og sjálfsöryggi til að fara eitthvað annað,“ segir Helga María og bætir við að ungmennin fái ákveðinn tíma með sér þar sem þau setjist niður og ræði málin, hvort sem það er eitthvað sem þau glíma við í persónulegu lífi sínu eða hjá Fjölsmiðjunni. „Þau ráða því hvernig þau nýta tímann hjá mér. Þau geta t.d. sett sér markmið eins og að fara í ræktina, hætta að reykja eða annað.“ Helga María er viðskiptafræðingur með kennsluréttindi og kláraði meistaranám í stjórnun og eflingu mannauðs. „Starfið er í senn krefjandi og gefandi. Mér finnst rosalega gaman að sjá einstaklingana þroskast og eflast og þegar þau finna að þeim líður vel hér og vilja koma hingað.“ Brettasmíði nýjasta verkefnið Rekstur Fjölsmiðjunnar snýst m i k i ð u m st ar f s e m i Ny tj a markaðarins við Smiðjuvelli í Reykjanesbæ. Markaðurinn hefur að sögn Þorvarðar gengið mjög vel í sumar og opnunartíminn verið lengdur á fimmtudögum til klukkan sex. „Við lokuðum bílaþvottadeildinni í sumar en vorum í staðinn með útimarkað þar sem fjöldi fólks kom og keypti húsgögn. Við sækjum einnig vörur til fólks og í Kölku og slíkt.“ Einnig er fyrirhugað að leigja stærri hluta af húsinu og fara í brettasmíði. „Við munum tilsníða nýjar pallettur úr efni úr gömlum brettum. Þær eru fyrir fyrirtæki í fiskútflutningi. Til þess þurfum við að stækka húsnæðið því Fjölsmiðjan er að stækka

og við erum aðþrengd með pláss þótt við séum í 600 fermetrum.“ Vildarvinir velkomnir Fjölsmiðjan byggist á fjárframlögum frá sveitarfélögunum, Vinnumálastofnun og ríkinu. „Það nægir ekki og því reynum við að sjálfsafla fé og okkur vantar verkefni sem krakkarnir geta unnið. Einnig vantar okkur vildarvini Fjölsmiðjunnar - einstaklinga sem vilja láta gott af sér leiða. Margir þeirra vilja gefa vörur í Nytjamarkaðinn, aðrir koma að versla. Sumir velja að taka ekki við afgangi þegar þeir kaupa og vilja heldur láta hann renna til krakkanna. Ef einhverjir gerast vildarvinir þá getur það runnið til þessarar fræðslu og afþreyingar fyrir krakkana.“ segir Þorvarður. Dúkkuhúsið var farið um leið Lykilorð Fjölsmiðjunnar eru virðing og umburðarlyndi og unnið er úr frá þeim. „Einnig er rými fyrir alla og við erum öll ólík. Hér er og hefur verið gott starf unnið. Mér finnst ég gera samfélaginu gott með því að veita þessu forstöðu, læt mig málin varða og er hluti af einhverju góðu. Það er svo hvetjandi. Það eru nefnilega einnig margir á bak við okkur sem vilja okkur vel. Það er rými fyrir okkur öll,“ segir Þorvarður og minnir á Facebook síðuna Fjölsmiðjan á Suðurnesjum. „Þar seljum við grimmt. Allt sem glepur augað vekur athygli. Það kom dúkkuhús um daginn og það var farið um leið. Kona ein kom úr Reykjavík því hún sagði að það væri ódýrara að aka suðureftir og kaupa vöruna hjá okkur en í Góða hirðinum,“ segir hann brosandi að lokum.

Það kom dúkkuhús um daginn og það var farið um leið


ÞETTA ER EKKI RÉTTLÁTT! Fjárlagafrumvarpið 2015 er aðför að launafólki á Íslandi. Fjöldi stéttarfélaga á landinu hefur mótmælt fjárlagafrumvarpinu harðlega í formi ályktana.

Hækkun á matvælum

Atvinnuleysistryggingar

Hækkun á matarskatti er aðför að launafólki sem ver stórum

Stytting bótatímabils er fordæmalaus aðför að atvinnu­

hlutum tekna sinna til kaupa á brýnustu nauðsynjum.

lausu fólki og mun auka enn á fátækt í landinu.

Starfsendurhæfing

Menntamál

Niðurskurður til starfsendurhæfingar er aðför að fólki sem

Fyrirheit um eflingu starfs­, verk­ og tæknimenntunar eru

veikist eða slasast og þarf á starfsendurhæfingu að halda til

svikin og möguleikar fólks á vinnumarkaði með litla form­

að komast aftur út á vinnumarkaðinn.

lega menntun til að sækja sér nám eru skertir verulega.

Heilbrigðismál

Húsnæðismál

Með meiri kostnaðarþátttöku vegna lyfja og heilbrigðis­

Ekki er gert ráð fyrir neinum auknum framlögum til að

þjónustu er gróflega vegið að hagsmunum sjúklinga og

mæta miklum vanda í húsnæðismálum.

ENNEMM / SÍA / NM64580

þeirra sem þurfa á þessari þjónustu að halda. Skattalækkanir Jafnræði í lífeyrismálum

Ríkisstjórnin hefur að undanförnu afsalað ríkissjóði tekjum

Skert framlög til jöfnunar örorkubyrða almennra lífeyris­

fyrir tugi milljarða króna til að bæta hag þeirra ríkustu.

sjóða valda skertum lífeyrisgreiðslum til félagsmanna ASÍ.


14

-

fimmtudagurinn 2. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR

smáauglýsingar TIL LEIGU

ATVINNA ÓSKAST

Til leigu er stúdió íbúð Hún leigist með húsgögnum Og í mánuð í senn Uppl: í síma 894 1412

Óska eftir vinnu er bókari og gjaldkeri til margra ára hef lokið prófi í viðurkenndu bókhaldi. Annars kemur margti til greina ég sendi ferilskrá ef óskað er. Sendið á mitt email g.ormsd@ gmail.com ef áhugi er fyrir hendi.

ÓSKAST Reglusöm fjölskylda óskar eftir langtíma leigu húsnæði helst í innri Njarðvík. Öruggar greiðslur og góð umgengni. Sigga sími 6975815

-mannlíf

Útvörður Faxaflóans sjötugur - afmæli Garðskagavita fagnað

TIL SÖLU Toyota Corolla árg 95. Skoðaður 2015. Upplýsingar í s: 8973899.

NÝTT

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla

Forvarnir með næringu

Opið alla daga fram á kvöld

STAPAFELL

Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979

Hafnargötu 50, Keflavík

www.bilarogpartar.is

+ www.vf.is

83% LESTUR FJÖLSMIÐJAN Á SUÐURNESJUM

pósturu vf@vf.is

Fjölmenni var í afmælisveislu Garðskagavita. VF-myndir: Hilmar Bragi

Kompan nytjamarkaður er opin alla virka daga frá kl. 10:00 - 15:00 og til 18:00 á fimmtudögum.

E

inn af útvörðum Faxaflóans, Garðskagaviti, er orðinn 70 ára. Vitinn er jafnaldri lýðveldisins Íslands en hafist var handa við smíði Garðskagavita sumarið 1944 en vitinn var svo vígður 10. september það ár. Nú 70 árum síðar stendur vitinn enn og þjónar enn sínum tilgangi að lýsa sjófarendum um fjölförnustu siglingaleið við Íslands fyrir Garðskaga. Garðmönnum er hlýtt til Garðskagavita og héldu mikla sagna- og menningarveislu á Garðskaga um liðna helgi til að fagna árunum 70. Efnt var til guðsþjónustu en einnig var messað á Garðskaga fyrir 70 árum þegar vitinn var vígður. Hörður Gíslason frá Sólbakka í Garði rakti sögu Garðskagavita og sagði frá vitum um allan heim allt frá tímum Rómverja. Á Byggðasafninu í Garði sýndi Kjartan Guðmundur Júlíusson ljósmyndir frá Garðskaga. Í Hólmsteini GK, sem er safngripur byggðasafnsins, voru einnig sýndar ljósmyndir frá Gerðabryggju frá því upp úr miðri síðustu öld. Þá sýndu listamenn úr Garði safn listaverka í Garðskagavita þar sem listamennirnir hafa sótt innblástur í Garðinn og Garðskaga. Þá var boðið til tónlistarveislu í Garðskagavita þar sem boðið var upp á söng, harmionikkuspil og Birna Rúnarsdóttir lék á þverflautu í vitanum en hljómburðurinn í Garðskagavita er einstakur, enda vitinn sá stærsti hér á landi og kjörinn til tónlistarflutnings.

Mikið úrval - góð verð. Bílaþvottur á góðu verði. Tímapantanir í síma 421-1551

Listamenn sýndu verk sín í vitanum.

Capacent Ráðningar

DEILDARSTJÓRI REIKNINGSHALDS Reykjanesbær óskar eftir að ráða deildarstjóra í reikningshald bæjarins. Deildarstjóri ber ábyrgð á bókhaldi Reykjanesbæjar, stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins. Starfið heyrir undir fjármálastjóra. Um er að ræða fullt starf. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru skv. kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Helstu verkefni: • Yfirumsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi • Umsjón með fjárhagskerfinu Dynamics NAV • Afstemmingar og lokafrágangur mánaðaruppgjöra • Vinna við árshlutauppgjör og ársreikninga bæjarfélagsins í samvinnu við yfirmann og endurskoðendur • Innra eftirlit og almennt rekstrareftirlit • Reikningagerð, skýrslugerð og greiningarvinna úr bókhaldi • Ráðgjöf í bókhalds- og uppgjörsmálum • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur: • Viðskiptafræðimenntun í reikningsskilum og endurskoðun • Þekking og reynsla á bókhaldi er skilyrði • Löggilding til endurskoðunarstarfa kostur og/eða reynsla af störfum á endurskoðunarstofu • Þekking á lögum og reglum um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga • Góð þekking og færni á Dynamics Nav og Excel • Greiningarhæfni, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi • Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar

Umsóknarfrestur er til og með 20. október nk. ATHUGIÐ: Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/lausstorf. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Erik Christianson Chaillot (erik.chaillot@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.

Capacent Ráðningar Ármúla 13 // Hvannavöllum 14 Sími 540 1000


15

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 2. október 2014

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

Kvenfélag Keflavíkur lýkur upp dyrunum K

venfélagasamband Íslands hefur verið til síðan 1930 . Það var stofnað til að halda utan um kvenfélög í landinu, sem í dag eru 170 talsins og hafa innanborðs nokkur þúsundir kvenna. Vetrarstarf Kvenfélags Keflavíkur hefst mánudaginn 6. október 2014, kl. 20 í Rauðakrosshúsinu við Smiðjuveg í Keflavík. Þá er ætlað af hafa kynningu á starfsemi félagsins ásamt því að Marta María í Smartlandi kemur og skemmtir okkur og fræðir. Einnig er borið fram kaffi og með því gegn vægu verði. Vonumst við til að allar konur sem áhuga hafa á Kvenfélaginu sjái sér fært að koma og taka þátt í kvöldinu með okkur félagskonunum. Við hittumst venjulega fyrsta mánudag hvers mánaðar frá október til maí. Það er oft mjög glatt á hjalla og gaman að vinna saman að gleði annara. Í ár er Kvenfélag Keflavíkur 70 ára og hefur unnið mikið og áhrifaríkt starf á þessum

RAUÐAKROSSBÚÐIN Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ Opnunartímar Fimmtudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Föstudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Fatnaður, skór og gjafavara Rauði krossinn á Suðurnesjum

Elskulegi eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,

Björgvin Theodór Hilmarsson, vélstjóri, Smáratúni 42 Keflavík,

lést á heimili sínu 16. september sl. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir fær heimahjúkrun á HSS.

tíma fyrir samborgara sveitafélagsins. Vonumst við eftir að geta haldið því starfi áfram að sama ákafa og viljum því trekkja fleiri konur til verka. Stöndum þéttar saman að en betri uppbyggingu

á komandi árum. Sjáumst mánudaginn 6 október 2014. F.h. Kvenfélags Keflavíkur Sumarrós Hildur Ragnarsdóttir stjórnarkona.

Jóhanna Sigríður Pálsdóttir, G. Ágústa Björgvinsdóttir, Hilmar Theodór Björgvinsson, Sigvaldi Björgvinsson, Gunnlaugur Björgvinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

Sigmundur Guðmundsson, Guðný Sigríður Magnúsdóttir, Edda Ýr Guðmundsdóttir,

Sýningunni „Heimskautin heilla“ færð gjöf S

endiherra Frakklands á Íslandi, Marc Bouteiller, færði sýningunni "Heimskautin heilla" í Þekkingarsetri Suðurnesja kompás að gjöf í gær. Kompásinn er úr skipinu Pourquoi-Pas? sem fórst undan ströndum Íslands þann 16. september 1936. Skipið Pourquoi-Pas? var á leið í leiðangur til Grænlands er það lenti í fárviðri og fórust 40 skipsverjar en aðeins einn komst lífs af. Leiðangursstjórinn, hinn frægi landkönnuður Jean-Baptiste Charcot var einn þeirra sem fórust með skipinu. Með sýningunni "Heimskautin heilla" er leitast við að endurskapa það magnaða andrúmsloft sem ríkti um borð í rannsóknarskipunum á sínum tíma, en auk þess hefur verið safnað saman margvíslegum fróðleik í máli og myndum um ævi Charcots og störf. Franska sendiráðið og afkomendur Jean-Baptiste Charcot hafa fært sýningunni margar og merkar gjafir. Kompásinn sem afhentur var í gær er merkileg

Ástkær bróðir okkar og vinur,

Bjarni Þór Friðþjófsson, Hringbraut 57 Keflavík,

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 27. september sl. Hann verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 8. október nk. kl. 13:00. Systkini og vinir.

Ólafur Þór Ólafsson forseti bæjarstjórnar, Marc Bouteiller sendiherra og Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri.

viðbót við sýninguna. Kompásinn kemur úr einkasafni Anna-Marie Vallin-Charcot, barnabarns landkönnuðarins fræga Charcot.

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona og amma,

Magnea Eyrún Jensdóttir, Háteigi 20, Keflavík,

sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðvikudaginn 17. september var jarðsungin frá Keflavíkurkirkju í kyrrþey að ósk hinnar látnu. María Ísabel Grace Fisher, Róbert Jens Fisher, Magnea Lynn Fisher, Halldóra Jensdóttir, Eygló Jensdóttir, Jóhanna Jensdóttir Sehner, og barnabörn.

HEILSUHORNIÐ

Unnar Sveinn Stefánsson, Bryndís Lúðvíksdóttir, Ellert Hannesson, Ari Sigurðsson, Erich Sehner,

Hreyfum okkur í átt að betri heilsu! Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar fór af stað með stæl og margir viðburðir í boði fyrir okkur bæjarbúa til að hvetja okkur áfram á braut bættrar heilsu og framundan í meistaramánuðurinn svokallaði sem enn frekar hvetur okkur til að tileinka okkur heilsusamlegri lífsvenjur, þannig vel við hæfi að gefa ykkur nokkrar punkta um hversu hreyfingin er okkur lífsnauðsynleg. Þetta þarf oft vera flókið og eru t.d. röskir göngutúrar besta lyfið sem til er til að vinna bug á og fyrirbyggja sjúkdóma og til að draga úr sjúkdómseinkennum. Það að ganga er eitthvað sem flestir hafa getu til og er mjög aðgengileg hreyfing þannig oft er gott að byrja á einhverju sem er einfalt. Svo er hægt að færa sig upp á skaftið og prófa sig áfram með aðrar tegundir af hreyfingu sem hentar hverjum og einum. Lykilatriðið er að hreyfa sig a.m.k. 30-60 mín 3-5x í viku, jafnvel meira ef maður hefur tök á. Drífum okkur af stað í hreyfingu og setjum í forgang að tileinka okkar heilbrigðari venjur þennan mánuðinn og uppskerum í staðinn bættari heilsu og vellíðan. Regluleg hreyfing... ÁSDÍS GRASALÆKNIR SKRIFAR

• Eykur úthald og orku • Lækkar blóðþrýsting • Lækkar blóðfitu/kólesteról/blóðsykur • Eykur starfssemi hjarta-og æðakerfis • Eykur súrefnis-og næringarupptöku • Dregur úr bólgum og styrkir stoðkerfið • Eykur efnaskipti og stuðlar að þyngdarlosun • Eykur mótstöðu okkar gegn streitu og álagi • Bætir skap og eykur sjálfsöryggi Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.

www.facebook.com/grasalaeknir.is - www.instagram.com/asdisgrasa - www.pinterest.om/grasalaeknir

Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar ástkærs bróður míns, stjúpföðurs okkar, tengdaföður, afa og langafa,

Þorgils Stefánssonar,

til heimilis að Hlévangi Keflavík, Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hlévangi og á bæklunardeild Landspítalans í Fossvogi fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Stefán Stefánsson, Birgir Kristjánsson, Sigríður Kristjana Kristjánsdóttir, Guðný Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

Einar Guðberg Gunnarsson,

Vilborg Strange,

(áður til heimillis að Vallarbraut 6, Njarðvík), lést laugadaginn 27. september á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Hafnafirði Jarðaförin verður auglýst síðar.

Sjónvarp Víkurfrétta Alla fimmtudaga kl. 21:30 á ÍNN

Sigríður Victoría Árnadóttir, Garðar Árnason, Þorvaldur Árnason, Kristrún Lísa Garðarsdóttir, Vilborg Anna Garðarsdóttir, Hulda Karen Guðmundsdóttir, Árni Þórmar Þorvaldsson, Drífa Guðrún Þorvaldsdóttir, og langömmubörnin hennar.

Guðmundur Svavarsson, Kristrún Stefánsdóttir, Helga Birna Ingimundardóttir, Nils Johan Torp, Þorgrímur Hallsteinsson, Hjálmar Vatnar Hjartarson,


16

fimmtudagurinn 2. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-aðsent

pósturu vf@vf.is

■■Hjördís Árnadóttir skrifar:

Takk fyrir mig Ö

ll stöndum við einhvern tímann á tímamótum. Ég stend þ essa dagana á einum stærstu tímamótum ævi m i n n ar h i ng a ð til. Af heilsufarsástæðum þarf ég að láta af störfum fyrr en ég hefði viljað. Ég vel að taka því með æðruleysi og sætta mig við aðstæður. Ég geri mér grein fyrir að starf félagsmálastjóra krefst 100% framlags ef ekki 200% og ég vil ekki sitja í því, á kostnað sjálfrar mín, samstarfsmanna og þjónustu við ykkur kæru íbúar. Það hafa verið forréttindi að vinna fyrir ykkur fólkið í samfélaginu okkar, sem hafið á einum eða öðrum tíma þurft að leita eftir félagslegri þjónustu. Starfsaldur minn hjá Reykjanesbæ er jafnlangur og sveitarfélagið er gamalt. Það er því óhætt að fullyrða að starfið hafi mótað mig og ég það. Ég hef hitt marga á þessum árum og ávallt verið annt um að sýna hverjum manni virðingu og mæta fólki þar sem það er statt hverju sinni. Mest hef ég haft gaman af því að kynnast „furðufuglunum“ sem þora að vera þeir sjálfir og gefa lífinu lit. Ég vona að ég geti flokkast undir þann hóp, ég vil vera „furðufugl“. Ég hef verið afar lánsöm með samstarfsfólk og fullyrði að til Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar hefur ávallt valist úrvals

starfsfólk, meðvitað um að við erum hér fyrir fólkið. Reykjanesbær er góður vinnustaður þar sem allir vilja samfélaginu sínu það besta undir stjórn þess bæjarstjóra sem stýrir skútunni hverju sinni. Félagsleg þjónusta er oft litin öðrum augum en önnur þjónusta við íbúa. Hún er engu að síður einn mikilvægasti þjónustuþáttur í hverju samfélagi og hefur fylgt mannkyninu frá upphafi. Engin veit hvenær eða hvort hann þarfnist einhverrar þeirrar þjónustu sem þar er að finna, en þegar og ef, á það að vera fólki jafn eðlilegt og sjálfsagt og að skrá barnið sitt í skóla, fá teikningar af húsinu sínu, sækja sér bók í bókasafnið og svo framvegis. Með trega kveð ég góðan vinnustað sem hefur verið stærsti partur lífs míns undanfarna áratugi, en ég hef valið að sætta mig við hlutskipti mitt. Ég vil þakka ykkur öllum, sem ég hef haft samskipti við á liðnum árum, fyrir ykkar þátt í að gera mig að þeirri manneskju sem ég er. Ég er bara nokkuð sátt við þá manneskju og hyggst rækta hana enn frekar nú þegar nýjir tímar taka við. Hver veit nema þið rekist á mig við ólíklegustu aðstæður. Ég hef nefnilega áttað mig á því að köllun mín í lífinu er „þjónusta“ og ég mun halda áfram á þeirri braut, þegar ég hef komið jafnvægi á heilsuna mína, þó það verði ekki sem launþegi. Til „þjónustu“ reiðubúin Hjördís Árnadóttir

■■ FAAS, Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra með skylda sjúkdóma

Kaffihúsaspjall og pönnukökur T

eng l a h ópu r FA AS mu n hefja haust og vetrarstarfið á Suðurnesjum með fyrsta fundinum í Selinu Vallarbraut 4 (Njarðvík) Reykjanesbæ, nk. þriðjudaginn 7. október kl. 16.30 Tenglahópur FAAS hér á Suðurnesjum er að hefja sitt þriðja starfsár með fræðslufundi ásamt gagnlegum upplýsingum fyrir alla áhugasama um heilabilun og nefnum við fundina „Kaffihúsaspjall og pönnukökur“. Fræðsla þessi hefur að okkar mati tekist með miklum ágætum og er hópurinn fullur bjartsýni um að halda áfram með slíkt fyrirkomulag á komandi vetri. Hópurinn áætlar 2- 3 fræðslufundi yfir veturinn sem hver um sig verða auglýstir hverju sinni en allir verða þeir haldnir á sama stað og sama tíma dagsins og fyrsti fundurinn. Tenglahópur FAAS á Suðurnesjum telur að mikla þörf fyrir almenna fræðslu um málefni Alzheimerssjúklinga og annarra með skylda sjúkdóma og það hafi sannast með mætingu á fyrri fundi. Hópurinn telur ljóst að allir/flestir vilji búa heima svo lengi sem unnt er, en til þess þarf oftast aðstoð fjölskyldu og/eða heilbrigðiskerfisins. Tenglahópurinn biður alla áhugasama að fylgjast með auglýsingum frá okkur og hvetur til góðrar

mætingar þannig að möguleikar til fræðslu skapist áfram á heimaslóðum. Hópurinn er einnig með í gangi net-póstlista þar sem minnt er á fundina og erum nú þegar með talsverðan hóp sem fær sendan netpóst um þessa fundi. Ef fólk óskar eftir að bætast á listann og/eða vill koma ábendingum á framfæri, með það sem tilheyrir fræðslu um heilabilun, þá vinsamlega látið vita, sjá netföng hér neðar. Kaffihúsafundirnir hafa hingað til verið án aðgangseyris en kostnaður fylgir öllu og eru frjáls framlög vel þegin á fundunum svo hafa megi upp í kostnað s.s. auglýsingar, kaffimeðlæti og fl. Við þökkum þeim sem veitt hafa FAAS félaginu stuðning fram að þessu en betur má ef duga skal. Kær kveðja, FAAS tengiliðir á Suðurnesjum Aðalheiður Valgeirsdóttir, netpóstur avalgeirsdttir@gmail.com Ingibjörg Magnúsdóttir, netpóstur ingamagnusdottir@hotmail.com Helen Antonsdóttir, netpóstur ranarvellir@simnet.is Eygló Antonsdóttir, netpóstur eyglo@sandgerdi.is Margrét Söring Jónsdóttir, netpóstur maggaj@me.com Sigríður Þórólfsdóttir, netpóstur sigga2424@talnet.is

■■María Líndal formaður Foreldrafélags FS skrifar:

Heilsan og hafragrauturinn í FS F

jölbrautaskóli Suðurnesja er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli ásamt f lestum framhaldsskólum landsins. Heilsueflandi framhaldsskóli byggir á þeirri stefnu að nálgast forvarnir út frá víðtæku og jákvæðu sjónarhorni með það að markmiði að stuðla að vellíðan og auknum árangri allra í skólasamfélaginu, nemenda og starfsfólks. Verkefnið veitir aukin tækifæri til að efla tengslin við nærsamfélagið og auka þannig stuðning og tækifæri nemenda og starfsfólks til að tileinka sér jákvæðan og heilbrigðan lífsstíl. Fjölmargar rannsóknir styðja við þessa nálgun enda sýna þær að heilsueflandi umhverfi bætir líðan nemenda, stuðlar að bættum námsárangri og dregur úr brottfalli. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á heimasíðu Landlæknisembættisins. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er með heilsu- og manneldisstefnu og er meginmarkmiðið að nemendur og starfsmenn hafi aðgang að fjölbreyttu og hollu fæði í mötuneyti skólans. Samkvæmt manneldismarkmiðum, og til að stuðla að

heilbrigði, er yfirlýst stefna skólans að gosdrykkir og sælgæti eru ekki og verða ekki til sölu í skólanum. Nú þegar nýtt skólaár er hafið og nýir nemendur að hefja sína framhaldsskólagöngu í FS langar mig fyrir hönd foreldrafélagsins að minna foreldra á hafragrautinn og lýsið sem hefur verið í boði mötuneyti skólans frá árinu 2006. Hafragrautur og lýsi er nemendum að kostnaðarlausu frá kl. 7:45 til kl. 9:00 en svo geta þau keypt sér heitan mat í hádeginu ásamt fjölbreyttu úrvali af hollum réttum. Hafragrautur er frábær leið til að koma hollustu ofan unglingana á morgnana. Nemendur geta komið og fengið sér graut sem er holl og góð næring en jafnframt notið félagsskapar vinanna til að koma sér í gang fyrir daginn. Góð aðsókn

hefur verið í grautinn holla og fer hún vaxandi. Ég vil benda á síðu Fjölbrautaskólans HYPERLINK "http://www.fss. is/". Undir „þjónusta“ eða „skólinn“ er hægt að finna allt um heilsu- og manneldisstefnu skólans, matseðil og annað fræðandi og skemmtilegt efni. Fjölbrautaskóli Suðurnesja og Foreldrafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja eru með facebooksíður þar sem við reynum að vera með upplýsingar fyrir nemendur og foreldra um væntanlega viðburði og annað fróðlegt efni. Stefnum að hollari og frískari framtíð í FS. María Líndal formaður Foreldrafélags FS

■■Gylfi Jón Gylfason skrifar:

Ertu með grundvallaratriðin í árangursríku heimanámi á hreinu? Leggðu teina Sumir líkja barninu við járnbrautarlest, sem allir vita að fer betur að renna á teinum en án teina. Ef lestin fer af teinunum endar sú ferð ekki vel. Mikilvægt er að ræða heimanámið við barnið fyrirfram í skólabyrjun eða á fyrstu vikum skólastarfs og hvaða væntingar þú og skólinn hafið um það. Ræddu nákvæmlega fyrirkomulag heimanámsins við barnið. Hvenær það byrjar, hvar og hvenær því lýkur, hve löngum tíma skal varið, væntingar um hegðun og hvaða umbun barnið geti átt von á gangi heimavinnan vel, veljir þú að nota umbun. Kennari og foreldrar eru hér saman í liði og mikilvægt er að kennarinn styðji við heimilið með því að hafa væntingar til nemandans skýrar og koma þeim á framfæri við nemandann. Alltaf á sama tíma Best fer á því að hefja heimanám eins fljótt og hægt er eftir að barnið kemur heim. Eiginlega öll börn fyllast notalegri öryggiskennd við að finna að gott skipulag er á heimilinu. Ef heimanámið er yfirleitt á sama tíma minnkar það einnig líkurnar á því að barnið geri ágreining um heimanámið. Þegar líður fram á daginn er barnið orðið þreytt og það eykur líkurnar á að heimanámið gangi ekki vel. Að hafa heimanámið á sama eða svipuðum tíma minnkar einnig líkurnar á því

að þú stelist til að fresta því að aðstoða barnið fram á kvöld, þegar það er orðið örþreytt og þú líka. Njóttu samverunnar við barnið Skelltu þér í foreldragírinn og einbeittu þér að því að reyna að gera heimavinnu samveruna notalega með barninu. Jákvæðni er gott veganesti. Flestum börnum finnst gott að spjalla við foreldra og fá sér eitthvað í gogginn áður en byrjað er. Það er erfitt að vinna á fastandi maga. Það þekkjum við fullorðna fólkið líka. Áður en byrjað er er gott að taka vel á móti barninu, spyrja frétta. „Hvernig var í skólanum?“ og fleiri spurningar í þeim dúr eiga hér vel við áður en hafist er handa. Það leggur grunn að því að gera heimavinnuna að ánægjulegu verki. Taktu heimanámið eins og góða æfingu Gott er að hita sig upp á því sem létt er, taka stutt hlé og byrja svo að glíma við það sem þyngra er. Gott er að geta lokið heimanáminu á verkefni sem barnið eða unglingurinn ræður vel við. Líkt og með góða góða æfingu má alls ekki ofgera barninu, þá gerir æfingin bara illt verra. Ef barnið er að jafnaði að nota meiri tíma en ráðlagt er til heimanáms samkvæmt tíu mínútna reglunni þarft þú að ræða það sem fyrst við umsjónarkennara barnsins og aðlaga heimanámið að getu þess.

Alltaf á sama stað Misjafnt er eftir heimilum hvar lært er, eldhúsborðið er algengur staður. Mundu að barninu þínu líður vel í hæfilega skipulögðu umhverfi. Þú sem foreldri þarft að ákveða hvað hentar þínu heimili. Hér gildir reglan um skipulagið. Gott skipulag minnkar líkurnar á því að upp komi erfiðleikar og barnið mótmæli. Það sagt, þá er það hluti af eðlilegum þroska að athuga hversu langt maður kemst. Þess vegna skaltu ekki kippa þér upp við það þótt barnið reyni aðeins á mörkin. Ekki spara hrós og hvatningu! Börnum þykir gott að finna að við tökum eftir því þegar þau leggja sig fram, vertu þess vegna óspar á hrósið. Eitt öflugasta hjálpartæki þitt í heimanáminu er Ömmureglan. Ömmureglan virkar sérstaklega vel í heimanámi. Ömmureglan er afar einföld: Það skemmtilega kemur á eftir verkinu. "Þú mátt fara í tölvuna þegar þú ert búin að læra heima.“ „Þú getur heimsótt vinkonu þína þegar þú ert búin að lesa" og svo framvegis. Mundu bara að ömmureglunni má alls ekki snúa við til dæmis með því að barnið fái að vera í tölvunni allan daginn gegn loforði um að læra seinna, það virkar sjaldan vel. Til eru öflugar leiðir til að auðvelda þér heimavinnuna og í næstu grein ætla ég að ræða aðeins um umbun og notkun umbunarkerfa. Gangi þér vel Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri Reykjanesbæjar.


17

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 2. október 2014

-fs-ingur

-mannlíf

Hræddur við skordýr og bilað myrkfælinn

■■ Holuhraun og fjármál á opnu húsi hjá MSS:

Brynjar Þór G uð Hann er 19 ár nason er FS-ingur vikunn a Njarðvíking ar að þessu si ur náttúrufræði nn braut. Brynjar í húð og hár og stundar ná i. það gott á þe se má gi r fé lagslífi ss busi. Ef Brynj ari önn að hann væri til að ð í skólanum vera ar fengi einh upplifa hana ve kók í dós í m sem ötuneytinu og rju ráðið myndi hann bj óða upp á setja Beercup á laggirnar af tur.

Helsti kostur FS? Góður skóli og ennþá betri nemendur. Hjúskaparstaða? Er frátekinn. Hvað hræðistu mest? Held að það sé ekkert erfitt að finna harðari gaur en mig. Er skít hræddur við skordýr og ég er bilað myrkfælinn. Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Maciek Baginski fyrir körfubolta hæfileika sína og Ási Skagfjörð fyrir að vera bara hann. Hver er fyndnastur í skólanum? Klárlega Þorgils Gauti. Hvað sástu síðast í bíó? Skammarlegt að segja frá því að ég hef ekki farið í bíó síðan held ég í apríl og man ekki einu sinni hvað mynd það var. Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Gosdrykki( kók í dós) og svo mætti það alveg vera ódýrara. Hver er þinn helsti galli? Get verið alveg svakalega utan við mig og gleyminn. Einnig að ég læt alla hluti á bið í stað þess að framkvæma þá strax. Hvað er heitasta parið í skólanum? Maciek og Kolbrún eru sæt saman. Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Myndi leyfa Beercup aftur. Einnig myndi ég láta upp sms-kerfi svo þú fengir sms ef kennari hjá þér yrði veikur. Áttu þér viðurnefni? Já Binni, Brilli og svo eiga félagarnir viðurnefni á mig sem mig

líkar ekkert alltof mikið við. Þökk sé Aroni Hlyni. Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? „jæja virði það“ eða „virðing“ er límt á heilann minn. Þessir frasar eru náttúrulega komnir frá Ása Skagfjörð. Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Það gott að ég vildi óska þess að ég væri að upplifa þessa önn sem busi. Áhugamál? Flest allar íþróttir. Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Ekkert ákveðið. En ætla að koma mér burt af þessu landi sem fyrst. Ertu að vinna með skóla? Nei, ekki sem er. Hver er best klædd/ur í FS? Aron Ingi Alberts. og Róbert Freyr.

Eftirlætis: Kennari: Simon Fag: Stærðfræði Sjónvarpsþættir: One tree hill og Simpsons Kvikmynd: The Hobbit, Forrest Gump og Dumb and Dumber Hljómsveit/tónlistarmaður: Kid Cudi og Drake Leikari: Jim Carrey Vefsíður: Twitter, Fótbolti.net og menn.is Flík: Rauði Blazerinn minn, frakkinn frá Topshop og Arsenal treyjan Skyndibiti: Subway og Villaborgari Hvað tónlist/lag fílarðu í laumi (guilty pleasure)? Finnst Justin Bieber góður tónlistamaður.

póstur u eythor@vf.is

Sjónvarp Víkurfrétta

Alla fimmtudaga kl. 21:30 á ÍNN

pósturu vf@vf.is

Ari Trausti fjallaði um möguleika Reykjaness

F

til Mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Ari Trausti endaði sitt erindi á umfjöllun um ástandið á Reykjanesi, þá sérstaklega

jölmenni var á opnu húsi hjá MSS, sem haldið var sl. miðvikudag. Tilefnið var ný námskrá og kynning á starfsemi MSS, sem er mjög fjölbreytt að þessu sinni. Eins og undanfarin ár voru fengnir fyrirlesarar til að fræða gesti. Katrín Ósk Garðarsdóttir fjármálaráðgjafa hjá LTV, Leiðin til velgengni, fræddi okkur um hvaða skref mætti taka til þess að snúa mínus í plús, um ábyrgð einstaklinga í fjármálum og hvaða áhrif jákvætt viðhorf og yfirsýn geta haf á stöðu mála. Fjölmenni var á fyrirlestrinum og var umtalað að Katrín hafi geislað af jákvæðni, sem smitaðist yfir í hlustendur. Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur og áhugamaður um eldgos á Íslandi steig á stokk en hann er landsþekktur fyrir einstaka kunnáttu á íslenskri náttúru. Fjallað var um eldgosið við Holuhraun og nágrenni, sem enn hefur ekki hlotið nafn. Vill MSS því hvetja alla til að senda inn nafnatillögu

Gunnuhver. Fór hann yfir breytingar á Gunnuhver í aldanna rás og möguleika svæðisins í framtíðinni.

-afþreying

Sexí og valdeflandi þegar konur eru í aðalhlutverki Una Sigurðardóttir er 42 ára viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands en hún sér um starfsmannamálin hjá Icelandair Technical Services. Una er fædd og uppalin í Reykjanesbæ, er gift og á fjögur börn. Hún er mikill maraþonhlaupari, les Vogue og hlaupatímarit og er alæta á tónlist. Una segir lesendum Víkurfrétta hér frá því sem hún gerir sér til afþreyingar.

T

ónlistarkennarinn Harpa Jóhannsdóttir er að eigin sögn metnaðarfull sjónvarpsáhugamanneskja. Eins og starfstitill Hörpu gefur til kynna þá skipar tónlist einnig mikinn sess í lífi hennar en þar fór hún nýlega í nostalgíuferðalag á Facebook þegar hún tók þátt í því að velja 10 áhrifamiklarplötur í lífi sínu. Hún hlustar þessa dagana á jazz-píanistana Oscar Peterson eða Dave Brubeck á milli þess sem Gufan fær að hljóma. Þegar Harpa grípur í bók þá verða ævisögur eða skáldsögur byggðar á ævi stórmenna og almúgafólks oftast fyrir valinu. Bókin Þær bækur sem ég hef gaman að lesa mér til dægrastyttingar eru ævisögur eða skáldsögur byggðar á ævi stórmenna og almúgafólks. Fyrir stuttu las ég Við Jóhanna eftir Jónínu Leósdóttur, alveg stórmerkileg saga um erfiða en fallega ást. Á náttborðinu liggja svo tvær hálfkláraðar ævisögur sem bíða eftir því í ofvæni að vera sinnt á annan hátt en að vera þurrkað af reglulega. En það eru bækurnar Lífið í Djúpinu - Örlagasaga Rögnu Aðalsteinsdóttur á Laugabóli e. Reyni Traustason og Með sumt á hreinu - Saga Jakobs Frímanns Magnússonar e. Þórunni ErluValdimarsdóttur. Karakter Jakobs og frásagnarstíll Þórunnar gerir þessa síðarnefndu alveg sérstaklega skemmtilega.

Tónlistin Ég var einmitt að fara yfir þær plötur sem hafa haft hvað mestu áhrifin á mig í gegnum lífið í tengslum við Facebook áskorunina góðu. Fór semsagt í skemmtilegt nostalgíuferðalag með PJ Harvey, Samma og Tómasi R., Quincy Jones og fleirum. Í sumar áttu sálmar hug minn allan, sérstaklega eftir þá félaga Sigfús Einarsson og Pál Ísólfsson, þetta er svo falleg og hreinsandi músík. En þessa dagana finnst mér voða gott að skella á fóninn annað hvort Oscar Peterson eða Dave Brubeck ásamt hljómsveit; einstaklega færir og skemmtilegir jazz-píanistar. Svo rúllar gufan þess á milli til að fylla upp í tómið. Sjónvarpið Ég er mjög mikil sjónvarpsáhugamanneskja, mjög metnaðarfull meira að segja. Uppáhalds sjónvarpsþættir okkar Thelmu Bjarkar, konu minnar, eru raunveruleikaþættir af öllum toga. Vorum að klára t.d. fyrstu seríu af þættinum Married at First Sight sem var félagsfræðileg tilraun sem gekk út á það að fá fólk til að giftast sjálfviljugt við fyrstu kynni. Alls konar fræðingar voru búnir að para saman fólki sem þótti líklegt til þess að passa saman, virkilega skrýtnir en spennandi þættir. En af leiknu efni eru Orange is the New Black, Damages, The Good Wife og Scandal bestir, þættir með konum í aðalhlutverkum eru bara svo fjandi valdeflandi og sexí!

póstur u eythor@vf.is


18

fimmtudagurinn 2. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-íþróttir

pósturu eythor@vf.is

Lúxusvandamál að geta valið úr skólum Sara Rún líklega að leika sitt síðasta tímabil með Keflavík

A

ð öðrum ólöstuðum hefur Keflvíkingurinn Sara Rún Hinriksdóttir verið besti ungi leikmaður Dominos deildarinnar í körfubolta undanfarin ár. Svo góð hefur hún verið að mörgum þykir orðið tímabært að hún reyni fyrir sér á erlendri grundu. „Það hefur alltaf verið draumur minn að spila körfubolta í háskóla í Bandaríkjunum. Það er allt í vinnslu núna,“ segir Sara í samtali við VF. Hún stefnir á að útskrifast úr FS núna næsta vor á þremur árum og síðan er stefnan sett vestur um haf. Hún viðurkennir að nokkur fjöldi skóla hafi sett sig í samband við hana eftir Evrópumót 18 ára landsliðsins í Rúmeníu í sumar. „Ég get líklega valið úr nokkrum skólum, það er hálfgert lúxusvandamál. Það er þó ekkert í hendi og ég veit lítið eins og staðan er í dag.“ Sara veit að margt mun spila inn í þegar á hólminn er komið enda sé þetta gríðarlega stór ákvörðun. Verður þetta þá síðasta tímabilið þitt hjá Keflavík? „Ég ætla ekki að lofa neinu en það er draumurinn að fara út. Ég held að það sé bara svo skemmtilegt að geta fengið skólastyrk út á það sem þú elskar,“ segir Sara og það er augljóst að þetta er henni hjartans mál.

Keflvíkingar urðu á dögunum Lengjubikarmeistarar þar sem Sara fór hreinlega hamförum. Hún leiddi liðið í skoruðum stigum (24,5), fráköstum (11,8) og stoðsendingum (4,7). Hún dró vagninn þar sem erlendur leikmaður liðsins lék ekki með liðinu fyrr en í úrslitaleiknum. „Það má segja að við séum að koma vel undan sumri. Við erum búnar að æfa vel og æfingaferðin til Spánar gerði okkur gott. Við héldum að við værum að fara einhverja skemmtiferð en svo var aldeilis ekki,“ segir Sara létt í bragði. „Siggi þjálfari kann þetta alveg og barði okkur áfram þegar við þurftum á því að halda.“ Sara segir að hópurinn sé samheldinn enda séu leikmenn búnir að spila talsvert saman í gegnum yngri flokka og þekkist því vel. Sara er nýorðin 18 ára og er þegar orðin ein af reynslumestu leikmönnum liðsins. Í sumar fékk Sara lítið frí frá körfuboltanum enda var hún að leika með yngri landsliðum Íslands. Það má því segja að tímabilinu hafi aldrei lokið hjá henni. Margir leikmenn nota suamrtímann til þess að bæta sig og æfa af krafti. Sara segist ekki hafa gefið sér mikinn tíma til þess að æfa fyrir utan þessar venjulegu æfingar. Hún á það þó til að skella sér út að skokka þegar hún

er ekki að æfa, en það gerir hún til þess að hreinsa hugann og róa taugarnar. „Það hef ég gert í mörg ár og þykir afskaplega gaman.“ Þegar talið berst að komandi tímabili þá telur Sara að deildin verði jöfn og spennandi en Keflvíkingar séu líklegir til afreka. „Við viljum rosalega mikið vinna og gerum allt til þess að svo verði. Það er mikil sigurhefð hjá okkur, en við höfum flestar farið upp alla yngri flokka og unnið allt þar. Við tökum það með okkur inn í meistaraflokkinn núna. Ég held að við séum líklegar í vetur en það verður ekki auðvelt, við verðum að hafa fyrir því,“ segir Sara. 20 ára aldursmunur Birna eldri en mamma Söru Birna Valgarðsdóttir hefur reynst Söru mikil fyrirmynd enda fer þar mikill reynslubolti. Aldursmunurinn á þessum tveimur leikmönnum er 20 ár. Birna er á lokametrunum á sínum ferli en ennþá er ekki fyrirséð hvort hún ætli sér að vera með liði Keflvíkinga í vetur. „Hún er bara „one of a kind,“ hún er eldri en mamma mín en passar þvílíkt vel inn í hópinn og æfir af krafti. Hún rífur okkur upp þegar við erum kannski að hengja haus í leikjum. Hún er með reynsluna og er sífellt að kenna manni. Hún

Tekur það jákvæða úr tímabilinu

Ég held að við séum líklegar í vetur en það verður ekki auðvelt er algjör lykilleikmaður, ekki bara inn á vellinum heldur líka vegna þess að hún kemur með svo margt til borðsins,“ segir Sara um Birnu.

SPORTMOLAR víkingar komist í 7. sæti deildarinnar.

-Jóhann Birnir hefur hug á því að spila áfram með Keflvíkingum

M

iðjumaðurinn reynslumikli hjá Keflvíkingum, Jóhann Birnir Guðmundsson segist orðið sjá fyrir endan á ferlinum í fótboltanum. Jóhann verður 37 ára í desember en hefur hug á því að taka slaginn með Keflvíkingum áfram á næsta ári. Tímabilið í ár er þó búið hjá Jóhanni sökum meiðsla. „Maður er alveg farinn að átta sig á því að það styttist í annan endan á ferlinum. Mér finnst ennþá mjög gaman í fótbolta og langar að spila áfram. Ég tek nú bara eitt ár í einu. Undanfarin ár hef ég gert samninga til eins árs, ég hugsa að það verði bara copy/ paste núna,“ segir Jóhann sem ekki getur hugsað sér að spila með öðru liði í efstu deild. „Ég hef bara engan áhuga á því og það myndi ekki koma til greina.“

Jóhann telur að það sé óhætt að segja það að Keflvíkingar hafi verið hæstánægðir eftir sigurinn í Eyjum sem tryggði veru þeirra í efstu deild. „Þetta var gríðarlegur léttir þar sem við vorum búnir að koma okkur í leiðindamál. Það var líka langt síðan við unnum og leikurinn var flottur af okkar hálfu.“ Hann hafði aldrei trú á því að Keflvíkingar væru að fara að falla en neitar því ekki að staðan hafi verið leiðinleg. „Það er svekkjandi að hafa ekki gert betur úr þessari stöðu sem við vorum komnir í í byrjun sumars, það er ekki hægt að horfa framhjá því. Það er þó margt jákvætt á tímabilinu, t.d. eins og bikarúrslitin, þrátt fyrir tap þar. Líka sú staðreynd að margir ungir leikmenn fengu að láta ljós sitt skína. Það að lenda í svona baráttu er

Getur þú ímyndað þér að eiga 20 ár eftir í boltanum? Guð ég veit ekki. Já eigum við ekki að segja það bara,“ segir Sara að lokum og hlær.

eitthvað sem fer í reynslubankann hjá okkur öllum.“ Allt í mínus í deildinni Þrátt fyrir slakt gengi í deildinni þá var ævintýrið í bikarnum ákveðin sárabót fyrir Keflvíkinga. „Við vinnum leiki í bikarnum en það bara gerist þannig að í deildinni fór allt í mínus. Stundum er það þannig að því lengra sem líður á milli sigra þá minnkar sjálfstraustið. Það gerði illt verra að við vorum ekki að tapa á neinn eðlilegan hátt. Við vorum að fá mikið af mörkum á okkur í lok leikja og þar fram eftir götunum. Það er ekki eins og við höfum verið rassskelltir í öllum þessum leikjum,“ segir Jóhann.

Fimm landsliðsmenn frá Suðurnesjum XXSuðurnesjamenn eiga fimm fulltrúa í U19 landsliði karla í knattspyrnu sem tekur þátt í undankeppni EM í Króatíu í október. Frá Njarðvíkingum koma þeir Ari Már Andrésson og Aron Freyr Róbertsson. Frá Keflvíkingum eru þeir Ari Steinn Guðmundsson og markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson í hópnum, ásamt því að Keflvíkingurinn Samúel Kári Friðjónsson, sem er á mála hjá enska liðinu Reading fer einnig með. Hópurinn, sem telur 18 leikmenn, fer út til Króatíu á sunnudag og leikur þrjá leiki gegn Tyrklandi, Króatíu og Eistlandi. Njarðvíkingar eiga einn fulltrúa í hópnum til viðbótar, en Gunnar Örn Ástráðsson sjúkraþjálfari liðsins er með í hópnum.

Keflvíkingar öruggir í Pepsi-deildinni XXKeflvíkingar tryggðu sæti sitt í Pepsi-deildinni með 0-2 sigri á ÍBV í Eyjum á sunnudag. Það voru þeir Elías Már Ómarsson og Frans Elvarsson sem skoruðu mörk Keflvíkinga í leiknum. Næsti leikur Keflvíkinga er fer fram á Nettóvelli á laugardag en þá koma Víkingar í heimsókn. Með sigrinum komust Keflvíkingar í 22 stig og í 8. sæti upp fyrir Eyjamenn og Fjölni. Með sigri á Víkingum geta Kefl-

Nesarar gerðu það gott í Belgíu XXÍslendingar áttu 29 keppendur í Evrópuleikum Special Olympics sem fram fóru í Antwerpen í Belgíu fyrir skömmu. Íþróttafélagið NES frá Suðurnesjum átti sjö keppendur á leikunum auk þjálfara. Ingibjörg Margeirsdóttir keppti í sundi, Ari Ægisson og Thelma Gunnlaugsdóttir kepptu í frjálsum íþróttum, Eðvarð Sigurjónsson keppti í boccia og Sigurður Guðmundsson, Ragnar Ólafsson og Halldór Finnson kepptu í knattspyrnu. Þeim gekk öllum vel og komust flestir á verðlaunapall.

Keflvíkingar Lengjubikarmeistarar kvenna XXKeflvíkingar urðu um sl. helgi Lengjubikarmeistarar í körfubolta kvenna eftir sigur í spennandi viðureign gegn Valskonum. Lokatölur urðu 73-70 fyrir Keflavíkurkonur, en Valskonum mistókst að jafna leikinn undir lokin þegar þriggja stiga skot þeirra geigaði. Sara Rún Hinriksdóttir var sem fyrr frábær í liði meistaranna, en hún skoraði 20 stig og tók 9 fráköst. Nýi erlendi leikmaðurinn Tyson-Thomas var svo með myndarlega tvennu, 16 stig og 15 fráköst.


19

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 2. október 2014

Er kláralega betri en pabbi gamli Garðbúinn sem leikur með Keflavík og Njarðvík er spenntur fyrir Króatíu

A

ron Freyr Róbertsson er einn þeirra fimm Suðurnesjamanna sem eru á leið til Króatíu. Aron er uppalinn Víðismaður sem gekk til liðs við Keflavík í 4. flokki. Hann lék svo sem lánsmaður með Njarðvíkingum í sumar þar sem hann lék 19 leiki og skoraði 3 mörk, ásamt því að leika með 2. flokki Keflavíkur/Njarðvíkur. Í fyrra lék hann sem lánsmaður hjá Víði í 3. deild og stóð sig vel. Aron er framherji að upplagi en kann einnig vel við sig á kantinum. Þar lék hann bróðurpart sumars með meistaraflokki Njarðvíkur. Hann segir reynsluna í sumar hafa mikið að gera með það að hann hafi náð að vinna sér sæti í U19 liði Íslands. Ferðin til Króatíu verður fyrsta ferð hans með yngri landsliðum Íslands en áður hafði Aron einungis komist í æfingahóp. „Nú er bara að nýta tækifærið. Þetta verður frábær reynsla og ferðin verður örugglega mjög eftirminnileg,“ segir Aron um fyrirhugaða ferð. Faðir Arons, Róbert Sigurðsson, var öflugur í fótboltanum fyrir nokkrum árum en hann lék með Reynismönnum, Keflvíkingum og Grindvíkingum á sínum ferli. Róbert er uppalinn Sandgerðingur en Aron segist ekki bera miklar taugar

til Sandgerðinga enda alinn upp hjá Víði en rígur hefur jafnan verið á milli liðanna. „Það eru ekki einu sinni smá tilfinningar þarna,“ segir Aron léttur í bragði. „Ég held að pabbi sé jafnvel orðinn smá Víðismaður í hjarta enda fylgt mér þar og búið í Garðinum lengi,“ bætir hann við. Saman hafa þeir feðgar þá leikið með öllum Suðurnesjaliðunum utan Þróttar í Vogum. „Við feðgarnir erum með Suðurnesin í vasanum,“ segir Aron og hlær. Hann er hárprúður með eindæmum en hann segir í léttu gríni að hárið gefi sér aukinn kraft. Þó svo hann líti út fyrir að vera rokkari þá segir hann það vera langt í frá. Nanna Bryndís, söngkona úr OMAM, er systir Arons en hann segir að hún hafi ekki ennþá náð að smita sig af rokkinu. „Mér líkar

vel við tónlistina hennar og finnst hún mjög grípandi,“ segir Aron sem hlustar þó aðallega á hip-hop tónlist. Guðmundur Steinarsson þjálfari Njarðvíkinga hringdi í Aron á mánudagsmorgun og tilkynnti

honum um valið í landsliðið. Aron segir að hann hafi verið svakalega ánægður við tíðindin. Hann hafði staðið sig vel á æfingum með landsliðinu og alveg eins átt von á því að komast í hópinn. Aron er samningsbundinn Keflvíkingum og

stefnir á að vinna sér sæti í liðinu á næstunni og leika í Pepsi-deildinni. Hann segist þó geta hugsað sér að spila áfram með Njarðvík en setur markið hátt og dreymir um að komast alla leið í hinn stóra heim atvinnumennskunar.

dagar í Lyfju Reykjanesbæ 2. - 8. október Ef keyptar eru vörur frá Clinique fyrir 6.900 kr. eða meira er þetta kaupaukinn þinn* Kaupaukinn inniheldur:

• Liquid Facial Soap Mild 30 ml • Moisture Surge Intense 7 ml • All About Eyes Serum 5 ml

• High Impact Mascara 3,5 ml • High Impact Lip Colour 3,6 g

*meðan birgðir endast

Lið í enska? Er með hreint liverpool hjarta. Eftirlætis leikmaður? Zlatan alltaf í uppáhaldi. Hver er efnilegasti leikmaður Suðurnesja í fótbolta karla og kvenna? Elías már og Una í Keflavík og Helga Guðrún í Grindavík deila þessu á milli sín. Hvað borðar þú fyrir leik? Ristabrauð með sultu og osti er þetta vanalega. Hvor er betri, þú eða pabbi gamli? Ég klárlega! Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Atvinnumenskan er draumurinn. Erfiðasti andstæðingurinn? Gauti Gautason í KA tók mig og rúllaði mér upp í bikarnum fyrr í sumar, þannig hann er klárlega erfiðasti andstæðingurinn. Furðulegasti samherji sem þú hefur haft? Einar Kjartansson í Keflavík, hann er alltaf pirraður.

20% afsláttur NÝTT Smart serum

Skilur ástand húðarinnar. Getur sjáanlega breytt ójöfnum húðlit, línum og hrukkum eða stinnleika húðarinnar.

Ráðgjafi frá Clinique verður í Lyfju Reykjanesbæ föstudaginn 3. október.

2. - 6. október


vf.is

-mundi Palli er kannski líkur Lundanum, en Mundi Lundi hljómar betur

FIMMTUDAGINN 2. OKTÓBER 2014 • 38. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR

LJÓS í MYRKRINU VIKAN Á VEFNUM

ALLT AÐ 30% AFSLÁTTUR Í 4 DAGA SHA-0203

Ómar Jóhannsson Byrja meistaramánuð með því að horfa á Liverpool í Meistaradeildinni

20% afsláttur

Vinnuljóskastari m handf 400W ECO pera 1,8m snúra

30% afsláttur

afsláttur

4.295

LED Þríhyrningsljós

3.436

Birgitta María Vilbergsdóttir: 50 kg múrinn mölbrotinn í réttstöðulyftu! Yessss!

990

693

SHA-218-28E

Vinnuljóskastari ECO perur 2x400W tvöfaldur á fæti

20%

9.890

afsláttur

6.923

30%

30% afsláttur

Telescopic þrífótur fyrir halogen lampa

6.790

30% afsláttur

T38 Vinnuljós

5.590 Ólafur Þór Ólafsson Landsbankinn lokar útibúum (m.a. í Sandgerði) og ber fyrir sig aukna og bætta þjónustu á netinu. En í dag er ekki hægt að komast inn netbankann vegna viðhalds á fyrsta degi mánaðar þegar flestir þurfa bankaþjónustu. Ætli starfsfólk útibúanna hefði lokað og læst útihurðunum þó svo að álagið væri mikið? #rafræntekkialltafbetraenmannlegt Brynjar Leifsson Jæja krakkar þá er komið að þessu eftir að hafa fengið nokkrar beiðnir. Interpol – Antics Portishead – Third The Raveonettes – Whip it on Snoop Dogg - Da Game Is to Be Sold, Not to Be Told (fékk þessa í gjöf sem unglingur og hlustaði á hana daglega ) Nick Cave and The Bad Seeds – Henry’s Dream Radiohead – The Bends Massive attack – Heligoland Lee Hazlewood – Cowboy in Sweden A place to bury strangers Worship The Cardigans - First band on the moon

#Fotbolti

Haraldur Axel Vel gert Keflavík! Frábært að vera ekki liðið sem er of gott til að falla!

Ryco LDL-MD418A lampi m. grind 4x18W T8 62x60x8 cm með perum

7.990

5.593

5.592

16.990

11.893

5.593

30% afsláttur

2.475

afsláttur ÁN PERU

Loftljós flúor rakaþ. 2x18w 67,5x16,6cm

afsláttur

2.915

4.690

3.283

Loftljós flúor rakaþ. 2x36w 128x16,6cm

4.890 Kapalkefli 15 mtr

4.190

Fuglavík 18. Reykjanesbæ

afsláttur

LG236 T8 lampi

Kapalkefli Wis-SCR2-30 30 metrar

2.990

30% ÁN PERU

2.040

Ryco lampi með perum hvítur spegill 2x36W

4.615

Kapalkefli 10 mtr

2.793

30%

LG118C T8 lampi

30%

3.990

1.732

afsláttur

7.990

afsláttur Hleðsluljós LM6006

2.290

Loftljós flúor rakaþ. 1x18w 67,5x11,2cm

30% Ryco LCL-M2 T8 lampi 2x36W 113 cm IP30 með perum

30%

26W Vandað svart ál útiljós 36x17cm m/sparperu

LG118C T8 lampi

SHA-8083 3x36W Halogen

903

6.990

afsláttur

afsláttur

1.290

4.753

SHA-2625 Vinnuljóskastari Rone 28W m. innst. blár. 1,8m snúra

30%

30%

Gemstone LED ljós f/rafhlöður

3.230 PERUR FÁANLEGAR Í ÖLL LJÓSIN

ÁN PERU

30% afsláttur

SHA-V5228 IP65 T5 lampi

Flúor lampi með peru 2x28w 120cm

5.890

4.123

15 metra rafmagnssnúra

3.190

Opið virka daga kl. 8-18

Sími 421 1090 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

Neytendur athugið! Múrbúðin selur allar vörur sínar á lágmarksverði fyrir alla, alltaf. Gerið verð- og gæðasamanburð!

Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook