• fimmtudagurinn 6. október 2016 • 39. tölublað • 37. árgangur
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Komist verði að sameiginlegri niðurstöðu um DS ■■Bæjar yfir völd í Vogum vilja að fundin verði varanleg lausn á málum Dvalarheimila aldraðra á Suðurnesjum og að haldinn verði eigendafundur hið fyrsta þar sem valkostir verði ræddir og komist að sameiginlegri niðurstöðu um framtíð DS. Bæjarráð Voga tók málið til umfjöllunar á dögunum en þar var kynnt greining KPMG á málum DS. Afgreiðsla bæjarráðs, sem greint er frá hér að framan, var samþykkt í bæjarstjórn með öllum atkvæðum.
WOW!
Klór blandaðist neysluvatni í Reykjanesbæ ●●Elding truflaði skynjara og klórblanda úr vatnstanki fór inn á kerfið Klór blandaðist neysluvatni í Reykjanesbæ þegar unnið var við að þrífa vatnstank ofan við Eyjabyggð í Reykjanesbæ á mánudag. Fjölmargir íbúar í Reykjanesbæ tjáðu sig um sterka klórlykt af kalda vatninu á samfélagsmiðlum þá um kvöldiuið og lýstu ástandinu þannig að vatnið væri ekki drykkjarhæft og húsnæðið angaði af klórlykt eftir að vatn hafði verið látið renna. Á vef HS Veitna er greint frá því að á mánudag hafi starfsmenn fyrirtækisins þrifið „Staupið“ sem er varatankur, staðsettur fyrir ofan Eyjabyggð. Við þrifin var notuð klórblanda, 15 prósent klór blandaður við vatn. Þrifin voru hluti af undirbúningi fyrr noktun á tankinum en hann verður notaður þegar vatnsstopp verður í næstu viku vegna breytinga á stofnæð fyrir gerð undirganga við Hafnaveg. Á mánudagsmorgun kom elding sem varð þess valdandi að skynjari í aðalvatnstank við Grænás fraus og stjórnstöð HS Orku í Svartsengi fékk ekki réttar upplýsingar um stöðu sem gerði það að verkum að þrýstingur féll án þess að stjórnstöð yrði þess vör. Starfsmenn HS Veitna hleyptu vatni inn á
Þriggja bíla árekstur í Reykjanesbæ ■■Talsvert var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum fyrir og síðustu helgi. Í Reykjanesbæ lentu þrír bílar saman og voru skemmdir það miklar að fjarlægja þurfti þá með dráttarbifreið af vettvangi. Einn þeirra var kyrrstæður en ökumenn hinna tveggja voru fluttir til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Á Stapagötu lentu tveir bílar saman þegar þeir voru að mætast í sveigju sem er á veginum. Ökumenn beggja voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Bílarnir voru óökufærir eftir áreksturinn. Þar að auki rákust tveir bílar saman á hringtorgi á Njarðarbraut.
Missti framan af fingri í roðfléttivél
FÍTON / SÍA
■■Starfsmaður hjá fiskvinnslunni KEF Seafood missti framan af vísifingri í roðfléttivél á dögunum. Starfsmaðurinn hafði verið að þrífa vélina þegar óhappið varð og framhluti fingursins skarst af. Starfsmaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítalann í Fossvogi og tilkynnti lögregla málið til Vinnueftirlitsins. Á sunnudag var lögreglu tilkynnt um ökumann sem slasaðist á fjórhjóli í efnisnámum við Festarfjall, austan við Grindavík. Ökumaðurinn var með áverka á öxl og handlegg og var fluttur til læknis.
einföld reiknivél á ebox.is
Vatnstankurinn ofan við Eyjabyggð í Keflavík er kallaður Staupið. Þaðan fór klórblanda inn á neysluvatnskerfið í Reykjanesbæ. VF-mynd: hilmarbragi
varatankinn til þrifa í góðri trú um að aðaltankur við Grænás væri fullur eins og skynjari sagði til um. Síðar kom í ljós að skynjari sýndi ekki rétta stöðu og tankurinn var því næst tómur. Við þetta myndaðist sog sem varð til þess að klórblanda úr varatanki komst inn á kerfið. Sýni voru tekin og verða send til frekari rannsókna en frumathugun starfsmanna HS Veitna leiddi í ljós að styrkur var vel innan hættumarka.
ELDING Í FLUGVÉL YFIR NJARÐVÍK
■■Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Allt hreint við Holtsgötu í Njarðvík, náði ótrúlegum myndum í eldingaveðrinu sem gekk yfir Reykjanesskagann á mánudagsmorgun. Hann tók upp símann og hugðist taka videomyndir af eldingaveðrinu. Hann var nýbyrjaður að taka upp þegar TF-GAY, flugvél frá WOW, tók á loft frá Keflavíkurflugvelli. Halldór beindi myndavélinni að flugvélinni og örfáum sekúndum síðar varð flugvélin fyrir eldingu. Myndefnið vakti strax mikla athygli og hefur farið víða um heim. Á Youtuberás Sjónvarps Víkurfrétta hefur myndskeiðið fengið um 100.000 áhorf og á fésbók Víkurfrétta var áhorfið komið í 55.000 spilanir síðdegis í gær.
„Ég ætlaði nú bara að reyna að ná myndbandi af eldingunum. Svo sé ég flugvélina og beini upptökunni að henni og þá slær eldingum niður í flugvélina. Það er ótrúlegt að hafa náð þessu á myndband,“ segir Halldór í samtali við Víkurfréttir. Erlendir miðlar á borð við BBC, TV2 og Discovery hafa sett sig í samband við Halldór og beðið um að fá að sýna myndbandið. Einnig deildi flug-Instagramsíðan „Megaplane“ myndbandinu þar sem það hefur nú fengið yfir 40.000 áhorf. „Mánudagurinn fór nú eiginlega bara allur í að svara spurningum fjölmiðla,“ segir Halldór Guðmundsson. Myndin hér að ofan er úr myndskeiðinu sem hann tók. Án efa ein af fréttamyndum ársins.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
Hér er gert ráð fyrir allt að 485 íbúðum ásamt atvinnuhúsnæði.
Byggingaréttur á allt að 485 íbúðum í Reykjanesbæ til sölu ●●Opið söluferli á Miðlandi ehf. í Reykjanesbæ ■■Hömlur ehf. auglýstu í vikunni til sölu allt útgefið hlutafé í Miðlandi ehf. Það er fjárfestinga- og fasteignafélag sem stofnað var árið 1979 og hefur fjárfest í landi á Neðra-Nikkel svæðinu í Reykjanesbæ. Eign félagsins er tvíþætt, annars vegar eignarland sem samtals er um 34 hektarar og er skipulagt undir byggingu á allt að 485 íbúðum ásamt atvinnuhúsnæði (1,4 hektarar) og hins vegar samningur við Reykjanesbæ um að Miðland annist gatnagerð á svæðinu og hljóti tekjur af, segir í auglýsingu frá Hömlum sem er dótturfélag Landsbankans. Deiliskipulag fyrir hluta byggingarlandsins er þegar samþykkt og gerir ráð fyrir byggingu á samtals 300 íbúðum. Gatna- og holræsagerð hefur verið unnin að hluta til á svæðinu og hægt er að hefja framkvæmdir á hluta lóðanna nú þegar. Samkvæmt gildandi Aðalskipulagi Reykjanesbæjar er gert ráð fyrir byggingu allt að 185 íbúða til viðbótar. Söluferlið er öllum opið sem uppfylla hæfismat og geta sýnt fram á fjárfestingargetu að fjárhæð 300 milljónir króna.
2
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 6. október 2016
Reikningar frá HS Veitum ekki sjáanlegir um mánaðamót ●●Viðskiptavinir sem aðeins opna netbanka um mánaðamót missa af reikningum frá HS Veitum l Dagsetningum gjald- og eindaga breytt eftir að byrjað var að innheimta fyrir raunnotkun í hverjum mánuði Viðskiptavinir HS Veitna sjá ekki reikninga sína í netbönkum um mánaðamót. Eftir að fyrirkomulagi á gerð reikninga hjá HS Veitum var breytt í byrjun árs koma reikningarnir í netbanka 6. til 8. hvers mánaðar. Eindagi reikninganna er svo 23. dag mánaðar. Fólk sem aðeins opnar netbanka sína um mánaðamót sér reikninga frá HS Veitum því ekki, í byrjun mánaðar eru reikningar ekki komnir inn í netbanka og um næstu mánaðamót á eftir eru komið yfir eindaga og reikningar farnir til frekari innheimtu.
allir mælar þeirrar gerðar. Þá verður óþarfi að lesa af á staðnum og áætlanir óþarfar og eru þegar komnir þúsundir slíkra mæla í rekstur. Þegar lesa þurfti af mælum og áætla var miðað við að lesa af síðari hluta mánaðar og áætla síðan það sem á vantaði til mánaðarmóta og senda reikninginn þá fyrir
Í svari frá HS Veitum segir að ástæða þess að reikningarnir eru gefnir út 6. til 8. hvers mánaðar sé sú að nú sé raunnotkun færð á þá í stað áætlana. „Sem reyndar hefur þann ókost að reikningar eru sendir út síðar,“ segir í svari HS Veitna. Nú eru sendir út reikningar stuttu eftir mánaðamót með innheimtu fyrir notkun síðasta mánaðar en notkun ekki áætluð síðari hluta mánaðar eins og áður var.
mánaðamót. Í svari HS Veitna segir að það séu úrelt vinnubrögð þegar álesturinn liggi fyrir og þá sé unnt að reikningsfæra raunnotkun hvers mánaðar í stað áætlana. Af þessi leiði hins vegar að bíða þurfi fram yfir mánaðamót eftir rauntölum og því seinki reikningagerðinni.
Ákveðið hefur verið að skipta út öllum mælum og setja inn mæla sem skila álestri beint í gegnum netið og er gert ráð fyrir að eftir fimm til sex ár verði
Þeim fyrirspurnum hefur verið beint til HS Veitna hvers vegna ekki sé notast við tímabilið 20. til 20. næsta mánaðar þannig að reikningar séu
tilbúnir fyrir mánaðamót. „Því er til að svara að við gætum þetta að hluta til en ekki öllu leyti því að samkvæmt skattalögum þurfum við að telja til tekna allar tekjur vegna viðkomandi árs á því ári og það sama á í raun við varðandi sex mánaða uppgjör. Við yrðum þá, að minnsta kosti á þessum tímamótum, að áætla notkunina til mánaðamóta og draga svo væntanlega frá í næsta mánuði. Þetta hefur líka áhrif á uppgjör raforkutaps í kerfinu sem HS Veitur þurfa að kaupa. Það sem fer inn á kerfið okkar er nákvæmlega mælt af Landsneti um miðnætti lokadags en mælingu þess sem fer út af kerfinu væri þá háttað með öðrum hætti sem leiddi til mismunar,“ segir í svari HS Veitna.
Skemmdir unnar á Skessunni í hellinum
■■Ýmsar skemmdir hafa verið unnar á Skessunni í hellinum við smábátahöfnina í Reykjanesbæ að undanförnu. Í síðustu viku lagfærðu starfsmenn Reykjaneshafnar fingur og tennur Skessunnar sem búið var að brjóta.
Þegar fyrirkomulagi á reikningagerð var breytt var tilkynnt um þær á útgefnum reikningum og á heimasíðu og Facebook síðu fyrirtækisins. Í svari fyrirtækisins við fyrirspurn Víkurfrétta er bent á að sé greitt með boðgreiðslum af einhverju tagi sé vandamálið úr sögunni. „Það er skoðun okkar að það fyrirkomulag sé einfaldara og þægilegra fyrir alla aðila þegar málið er skoðað í heild.“
Búið var að brjóta fingur á Skessunni en starfsmenn Reykjaneshafnar hafa lagfært hann.
Hraðfréttamenn á sjóinn frá Grindavík
FARÞEGAAFGREIÐSLA IGS leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytileg og skemmtileg störf hjá fyrirtækinu. Um er að ræða störf í farþegaafgreiðslu Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi, sveiganleika og árvekni. Unnið er á vöktum. Nánari upplýsingar um aldurstakmark og hæfniskröfur: FARÞEGAAFGREIÐSLA - Starfið felst m.a. í innritun farþega og annarri tengdri þjónustu við þá. - Lágmarksaldur 20 ár, stúdentspróf æskilegt en ekki skilyrði, almenn ökuréttindi, góð tungumála -og tölvukunnátta Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið
Umsóknum er skilað inn rafrænt á vefsíðu IGS sjá www.igs.is fyrir 13. október 2016
■■Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson, fyrrum umsjónarmenn Hraðfrétta á RÚV hafa ráðið sig sem háseta á frystitogarann Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 sem Þorbjörn í Grindavík gerir út. Frá þessu var greint í Fréttatímanum. Skipið mun láta úr höfn þann 25. október næstkomandi og verður ferðin tekin upp og sýnd á RÚV á næsta ári. Í Fréttatímanum segir að Fannar hafi farið einn túr á sjó þegar hann var tvítugur og þá legið í koju í tvo daga og langað að deyja. Það mun það hafa farið mikið í taugarnar á Benedikt þegar Fannar rifjar þá tíma upp. Benedikt tók í fyrstu ekki vel í þá hugmynd að fara á sjóinn en lét svo til leiðast.
Slæleg umgengni á fjölda lóða veldur áhyggjum í Vogum Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga lýsir yfir áhyggjum sínum af slælegri umgengni á fjölda lóða á hafnarsvæðinu og við Iðndal í Vogum. Telur nefndin mikilvægt að fyrirtæki fari fram með góðu fordæmi og að lausamunir á lóðum séu umfram það sem talist geti til daglegs reksturs. Jafnframt lýsir nefndin yfir áhyggjum sínum er kemur að úrræðum sem Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja ætti að beita. Málið var tekið fyrir og rætt á síðasta fundi nefndarinnar. Þar var rætt um ástand, umhirðu og frágang lóða og lausamuna víða í sveitarfélaginu og leiðir til úrbóta.
Niðurstaða fundar Umhverfis- og skipulagsnefndar var að ákveðið var að senda ítrekun á fyrri bréf vegna stöðuleyfa og umhirðu lóða. Byggingarfulltrúa var jafnframt falið að fylgja málinu eftir og upplýsa nefndina um framgang þess á næsta fundi. Málið var jafnframt tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar Voga fyrir helgi og svohljóðandi bókun lögð fram: „Bæjarstjórn lýsir yfir áhyggjum sínum af úrræðum sem HES (Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja) ætti að beita og óskar eftir upplýsingum um fyrirhugað eftirlit í umhverfismálum í Sveitarfélaginu Vogum.“
markhönnun ehf
Verið velkomin
-
-30%
Tilvalin helgarsteik
-21% FYLLTUR LAMBAHRYGGUR ÁÐUR: 3.669 KR/KG KR KG
2.899
Úrval af kjöti
-22%
GRÍSAHRYGGUR PÖRUSTEIK - BEINLAUS ÁÐUR: 1.998 KR/KG KR KG
1.399
-25% NAUTALUNDIR - FROSNAR NÝSJÁLENSKAR ÁÐUR: 3.998 KR/KG KR KG
KALKÚNAGRILLSNEIÐAR ÁÐUR: 2.947 KR/KG KR KG
2.299
2.999
Mikið úrval fersku pasta frá Pastella
BROKKÍBLANDA FROSIN - 750 G ÁÐUR: 299 KR/PK KR PK
ANDALEGGIR - 2 STK ÁÐUR: 1.998 KR/KG KR KG
1.698
Hollt og gott í matinn
249
-15%
339
398
CAFESSO DOLCE GUSTO KAFFIHYLKI F. NESPRESSO VÉLAR 3 TEGUNDIR KR PK
CADB. FINGERS 114 G ÁÐUR: 198 KR/PK KR PK
789
168
-20%
-28% 899
Litríkur morgunmatur
1.494 NÝTT Í
FERSKAR PASTASÓSUR 3 TEGUNDIR KR STK
TRIX MORGUNKORN - 303 G KR PK
SKINNEY ÝSUBITAR FROSIÐ - 1 KG ÁÐUR: 1.698 KR/PK KR PK
279
SYMFONI GRÆNMETISBL. FROSIN - 650 G ÁÐUR: 389 KR/PK KR PK
NÝTT Í
-20%
SÆTAR KARTÖFLUR FROSNAR - 450 G ÁÐUR:329 KR/PK KR PK
BAD DOG - 250 ML ORKUDRYKKUR ÁÐUR: 179 KR/STK KR STK
129
Ekta danskur brjóstsykur
Tilboðin gilda 6. – 9. okt. 2016
-2
-2
NÖRREGADE BRJÓSTSYKUR ÁÐUR: 249 KR/PK KR PK
199
Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
Mjó
Frábært verð!
Súpukjöt, kótilettur, slög og læri
-40% DILKALIFUR - FROSIÐ ÁÐUR: 598 KR/KG KR KG
LAMB 1/2 SKROKKUR FROSINN ÁÐUR: 1.198 KR/KG KR KG
359
994
Taktu slátur!
-20% Þjóðlegt í Nettó
SLÁTURGERÐAR KASSI: LIFUR, HJÖRTU, ÞINDAR, 3 KG BRYTJAÐUR MÖR, 2,5 L BLÓÐ, 3 SVIÐ, 12 STK GERVIVAMBIR. KR PK
LAMBAFILLE M. FITU NÝSLÁTRAÐ ÁÐUR: 4.498 KR/KG KR KG
4.598
3.598
Berjadagar í nettó
Fersk ber á frábæru verði
-25%
LAMBABÓGUR, KYLFA - 2 STK ÁÐUR: 998 KR/KG KR KG JARÐARBER 250 G ÁÐUR: 549 KR/PK KR PK
858
384
-30%
R
JAFFA SAFI - 1 L EPLA/APPELSÍNU KR STK
K R K
149
TRÖNUBERJASAFI - 1 L ÁÐUR: 398 KR/STK KR STK
398
KLAKI KOLSÝRT VATN 2 L - 3 TEGUNDIR ÁÐUR: 169 KR/STK KR STK
HINDBER 250 G ÁÐUR: 855 KR/PK KR PK
599
149
299
Pussi og Friskies gæludýrafóður á 20 % afslætti
-28%
BRÓMBER 125 G ÁÐUR: 559 KR/PK KR PK
391
Friskies Pussi
ÉLAR
-20%
BLÁBER 125 G ÁÐUR: 569 KR/PK KR PK
BEBIKO MIDI BLEYJUR 50 STK - 9 KG ÁÐUR: 969 KR/PK KR PK
NÝTT Í
699
ALDA ICELAND KR STK
298 FAIRY UPPÞVOTTAL. - 1 L LEMON/APPLE ÁÐUR: 499 KR/STK KR STK
399
ALDA ER 100% NÁTTÚRULEGUR, SYKURLAUS SÍTRÓNUDRYKKUR MEÐ ÍSLENSKU KOLLAGEN
-20%
GÆLUDÝRAFÓÐUR PUSSI OG FRISKIES AFSLÁTTUR
20%
www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hafnarfjörður · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss
6
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 6. október 2016
RITSTJÓRNARPISTILL Páll Ketilsson
ÓHUGNANLEG UPPRIFJUN Það er svolítið óhugnanlegt að rifja upp einn sérstæðasta atburð í sögu Suðurnesjamanna sem gerðist fyrir tíu árum síðan. Þá fór stærsti vinnuveitandi svæðisins til hálfrar aldar í burtu frá landinu kalda, með manni og mús. Mikill fjöldi fólks, langflestir íbúar á Suðurnesjum, misstu vinnuna út af þessari brottför. Við erum auðvitað að tala um Varnarliðið. Ungir lesendur, ja, ef ekki flestir undir tvítugu vita varla að hér hafi verið bandarískur her á Keflavíkurflugvelli. Skilja líklega ekkert hvað hér er verið að fjalla um, nema að foreldrar eða frekar amma eða afi hafi sagt þeim frá því að þau hafi starfað í verslun Varnarliðsins, á símanum, í Messanum eða „pöblik-vörks“ og spyrja eflaust, hvað var það? Varnarlið sem veitti þúsundum manna störf í hálfa öld hvarf af landi brott með nokkur þúsund Ameríkana og skildi rúmlega þúsund Íslendinga eftir atvinnulausa. Fyrirvarinn þegar ákvörðun hafði verið tekin hjá bandarískum stjórnvöldum, um að hverfa á brott, var ekki mikill. Hálft ár leið frá ákvörðun þar til varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli, þar sem Varnarliðið hafði aðstöðu, geymdi aðeins byggingar, gamla orustuþotu og rúmlega hálfrar aldar sögu. Allt fólkið var farið. Kanaútvarpið þagnað. Margir Íslendingar, flestir Suðurnesjamenn, trúðu þessu ekki eða vildu ekki trúa þessu. „„Það var líkt og það hefði komið stór jarðskjálfti. Fólk var auðvitað skelfingu lostið,“ rifjar Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja upp en margir starfsmenn á Vellinum voru í því stéttarfélagi en einnig í Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis. Kristján Gunnarsson, formaður þess, rifjar þetta líka upp í viðtali við VF og segir meðal annars að nokkrum árum áður en herinn fór, var umræða á Suðurnesjum um að sú staða gæti komið upp að Varnarliðið væri farið að huga að brottflutningi. Kristján fór þá ásamt Jóhanni Geirdal, þáverandi formanni Verslunarmannafélags Suðurnesja, á fund Steingríms Hermannssonar, þáverandi forsætisráðherra, til að ræða um undirbúning ef til þess kæmi. Kristján segir fólk utan Suðurnesja almennt ekki hafa deilt áhyggjum þeirra. „Það var horft á okkur eins og við værum eitthvað skrítnir því brottför varnarliðsins þótti svo fjarstæðukennd.“ Hann segir að verkalýðsforkólfar um landið hafi heldur ekki haft mikla samúð með Suðurnesjamönnum þegar varnarliðið fór og að ríkið hafi ekki á neinn hátt veitt byggðaaðstoð til að takast á við atvinnumissi svo margra. Nokkuð athyglisverð ummæli verkalýðsforingjans en segja nokkuð um viðbrögð stjórnvalda og margra aðila sem fannst þetta ekki mikið mál. Það vildi til að svonefnt góðæri var í hæstu hæðum á árinu 2006 þegar Varnarliðið fór og því fengu margir fljótt önnur störf þó svo að margir, sérstaklega eldra fólk, fengi ekki nýja vinnu. En svo þegar bankahrunið bankaði á dyrnar voru margir fyrrum starfsmanna Varnarliðsins sem fengu fyrstir uppsögn. Nú eru liðin tíu ár. Suðurnesjamenn þóttu hafa farið offari í góðærinu og fengu ekki mikla samkennd eða samúð í mesta atvinnuleysi seinni tíma en fljótlega eftir bankahrun fór atvinnuleysi í hæstu hæðir á svæðinu. Þegar Kristján verkalýðsforingi nefnir í viðtalinu „byggðaaðstoð“ er ekki svo vitlaust að velta því fyrir sér ef við setjum töluna 1000 í annað samhengi, segjum til dæmis að svona hefði gerst á höfuðborgarsvæðinu, sem er um það bil tíu sinnum stærra svæði en Suðurnesin. Hvað hefði gerst ef tíu þúsund manns hefðu misst vinnuna? Sá sem þetta ritar setur þetta fram til umhugsunar því ríkisvaldið og Alþingi, þeir sem ráða miklu, gerðu ekkert til að lækna þetta sár, gáfu varla sprautu til að deyfa sársaukann. Hefði ekkert verið gert ef tíu þúsund manns hefðu misst vinnuna á höfuðborgarsvæðinu eða 100 til 200 manns misst vinnuna á Vestfjörðum? Við birtum viðtöl við verkalýðsforingja, fyrrverandi bæjarstjóra og upplýsingafulltrúa Varnarliðsins í þessu blaði og í sjónvarpsþætti vikunnar. Þeir rifja upp viðbrögð og hvað hafi verið gert. Okkur finnst þetta nefnilega ansi merkilegt í sögu svæðisins og munum fjalla meira um málið á næstunni. Skoða til dæmis hvernig hafi tekist til við endurreisn gamla varnarsvæðisins. Hvað er eiginlega gert þegar nokkur þúsund manna bæjarfélag fer bara í burtu? Hvað er gert við byggingarnar og hvernig tóku Íslendingar við stórum verkefnum sem Varnarliðið hafði greitt fyrir milljarða í mörg ár og séð um í áratugi? Mjög margir vita að endurreisn Keflavíkurflugvallar, sem áður hýsti Ameríkana, orustuþotur og herþyrlur þeirra, hefur gengið vel og þar er nú orðið nokkuð magnað og flott samfélag með framtíð. Meira um það síðar. Páll Ketilsson ritstjóri
RAUÐAKROSSBÚÐIN Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ Opnunartímar Miðvikudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Fimmtudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Fatnaður og skór.
Platan Lifun var leikin í heild sinni á tónleikum í Hörpu fyrr árinu og var myndin tekið við það tilefni.
ÆSKUDRAUMUR AÐ TRÚBROT SPILI Í STAPA ●●Trommusettið sem spilað var á við upptökur á Lifun prýðir Rokksafnið Tónlist hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Trúbrots verður flutt á tónleikum í Stapa á morgun, föstudaginn 7. október. Á tónleikunum verður platan Lifun flutt er hún er af mörgum talin eitt helsta meistaraverk íslenskrar tónlistarsögu. Að sögn Tómasar Young, framkvæmdastjóra Hljómahallar, er það æskudraumur marga þar innanhúss að Trúbrot komi fram í Stapa. Til að mynda hefur hann sjálfur lengi átt sér þann draum, sem og hljóðmaður Hljómahallar sem lengi hefur dreymt um að vera hljóðmaður á tónleikum með Trúbroti. „Það er því mjög gaman að þessi goðsagnakennda hlómsveiti spili hér,“ segir Tómas.
Platan Lifun verður flutt í heild sinni á tónleikunum auk annarra laga Trúbrots. Í ár eru 45 ár síðan Lifun kom út en hún var tekin upp í London. Tómas segir ljóst að meðlimir Trú-
brots hafi verið á undan sinni samtíð. Gunnar Jökull Hákonarson, heitinn, var trommuleikari Trúbrots og tók hann trommusettið sitt með sér til London í upptökurnar og segir Tómas það hafa verið afar fátítt á þeim tíma að tónlistarmenn flyttu svo stór hljóðfæri á milli landa. Trommusettið góða prýðir nú Rokksafnið og geta gestir litið á það á leiðinni á tónleikana. Gunnar Þórðarson og Magnús Kjartansson, meðlimir Trúbrots, skipa hljómsveitina, ásamt góðum hópi tónlistarmanna, þeim Stefáni Jakobsssyni, Andra Ólafssyni, Stefaníu Svavarsdóttur, Eyþóri Gunnarssyni, Gulla Briem, Pétri Grétarssyni, Friðrik Karlssyni og Jóhanni Ásmundssyni.
HS Veitur hf tilkynna Kaldavatnslaust vegna framkvæmda Vegagerðar ríkisins og Reykjanesbæjar við undirgöng Hafnaveg Vegna gerð undirganga við Hafnaveg þarf að færa til 600 mm stofnlögn kalda vatnsins í vegkanti Reykjanesbrautar. Vegna þessa verður lokað fyrir kalda vatnið miðvikudaginn 12. október kl. 22:00 á eftirfarandi stöðum:
Keflavík, Njarðvík og Sandgerði. Áætlað er að vatn verði komið á aftur og fullur þrýstingur fimmtudaginn 13. október kl. 11:00.
HS Veitur hf flytja tærustu afurðir þjóðarinnar inn á hvert heimili Rauði krossinn á Suðurnesjum
Sími 4225200 www.hsveitur.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
1Ís0len0skt%
korið SérsA I LAMB LÆR
ungnautakjöt
ldhiatað FAðueillnseað
498 kr. 330 g
1.698 kr. kg
1.398 kr. kg
Ali Snitzel og Gordon Bleu Foreldað, 330 g
Íslandsnaut Ungnautahakk Ferskt
Íslandslamb Lambalæri Ferskt, kryddað, sérskorið
GOTT VERÐ Í BÓNUS
Ný era p p u sk
1.279 kr. 900 g
598 kr. kg
ES Kjúklingabringur Frosnar, 900 g
398 kr. 1,36 kg
Ali Grísabógur Ferskur
Amerísk Smáepli 2 tegundir, 1,36 kg
300kr
verðlækkun pr.
1.279 kr. 700 g
1.237 kr. kg
Rose Kjúklingalæri Frosin, úrbeinuð, 700 g
1,36kg
kg
Ný uppskera
398 kr. 500 g
Brauðostur, 26% Verð áður 1.537 kr. kg
Akursel Gulrætur Lífrænar, 500 g
15
Þvottar
3200 blöð
998 kr. pk
598
Nicky Salernispappír 16 rúllur í pakka
Neutral Þvottaefni 15 þvottar
kr. pk.
1.498 kr. pk.
Libero Bleiur 4 stærðir
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00 Verð gilda til og með 9. október eða meðan birgðir endast
8
VÍKURFRÉTTIR
Atvinna Matorka leitar að starfsfólki í fiskeldi félagsins í Grindavík. Skemmtileg störf í boði í einum mest spennandi iðnaði landsins. Vinnutími frá kl. 8:30 - 17:00 og ein helgi í mánuði. Áhugasömum er bent á að senda ferilskrá á matorka@matorka.is.
Fundir 6. október kl. 17 í Ráðhúsinu Sandgerði og kl. 20 í Verkalýðshúsinu Grindavík
Hverjum treystir þú?
FUNDIR Í REYKJANESBÆ PARKINSONSAMTÖKIN Á ÍSLANDI halda fund í Reykja-
fimmtudagur 6. október 2016
SNJÖLL ÖPP GYLFA:
„App sem greinir hvort þú hrjótir“ Gylfi Már Þórðarson er 26 ára keflvískur viðskipta-
fræðinemi í Háskóla Íslands. Gylfi er mikill aðdáandi Huawei Nexus 6p símans síns og reynir að nota hann í eins margt og hann getur en það nær allt frá því að vakna og að því að læra nýtt tungumál. Hann er hvað þekktastur fyrir að hafa aðstoðað við leitina að flóttahundinum Hunter með misjöfnum árangri.
Sleep as Android
Besta vekjaraklukkan á markaðnum. Ef það væri ekki fyrir þetta app þá mundi ég líklega ekki vakna. Það finnur út hvenær þú sefur lausast og þá fer vekjarinn í gang. Óstaðfestar fregnir segja að þetta hjálpi makanum líka því að auk þess að vera vekjaraklukka þá greinir appið hvort maður hrjóti og reynir að fá mann til að hætta því með því að spila lítinn hljóðbút án þess að vekja mann. Ef það er einhver skvísa þarna úti sem getur hjálpað mér að staðfesta það þá er ég á Facebook.
Soundhound
Sjónvarp Símans
Hversu oft kemur það fyrir mann að maður er að hlusta á frábært lag í útvarpinu og bíður spenntur eftir því að útvarpsþáttastjórnandinn tilkynni hlustendum hvaða stórkostlegi listamaður var að verki en svo fer hann bara að tala um veðrið eða að tilkynna okkur hvað klukkan er? Soundhound er með lausnina á þessu hvimleiða vandamáli en það virkar þannig að þú kveikir á appinu á meðan lagið óþekkta er í gangi og það segir þér á innan við 10 sekúndum hvert lagið er.
Duolingo
App sem hjálpar þér að læra tungumál. Það byrjar á að sýna notandanum myndir með orðinu skrifað undir myndina á því tungumáli sem þú vilt læra. Í framhaldi af því eru orðin notuð í setningu sem notandinn þarf að þýða, það koma hlustunaræfingar sem og munnlegar æfingar. Það gæti verið meira spunnið í þetta frábæra app en ég er bara búinn með 3% í leið minni að því að verða reiprennandi í spænsku.
Að lágmarki þrjú kvöld í viku vippa ég mér í ræktina með það að tilgangi að vera hraustari maður en ég var í gær. Þá vill til að flestir leikir í íþróttum fara fram á kvöldin. Hjá flestum væri þetta vandamál en ekki hjá Appmann þessa vikuna. Maður kveikir bara á appinu, velur hvaða leik maður vill horfa á, stingur heyrnatólunum í eyrun, rífur í lóðin og ef að það hljómar eins og sá sem lýsir leiknum sé við það að fá flog þá tekur maður símann upp. Þannig getur maður séð það merkilegasta sem gerðist í leiknum án þess að missa af því að skella sér í ræktina. P.s. ég tek 180 kg í réttstöðu og ég nota enga stera.
RunPee – Gamechanger.
Eina appið á þessum lista sem nýtist mér ekki persónulega en ég held þó mikið upp á. Það vill nefninlega þannig til að góðvinur minn, Sigurvin Þór Sveinsson, er með minnstu þvagblöðru í heimi. Það er yfirleitt ekki stórt vandamál nema þegar að við félagarnir skellum okkur í bíó. Appið virkar þannig að þú velur þá bíómynd sem þú ert að horfa á og því næst setur maður af stað skeiðklukku um leið og myndin byrjar. Síðan þegar að lítið er að gerast í myndinni þá byrjar síminn að titra í vasanum og ég get bent Sigurvin á að drífa sig á klósettið án þess að trufla bíógesti of mikið og Sigurvin missir ekki af neinu merkilegu í myndinni. Allir vinna.
„Að lágmarki þrjú kvöld í viku vippa ég mér í ræktina með það að tilgangi að vera hraustari maður en ég var í gær“
nesbæ, fimmtudaginn 6. október, kl. 17.00 í Fjölskyldusetrinu, Skólavegi 1.
Á fundinum verður starfsemi samtakanna kynnt og Bergþóra Vilhelmsdóttir mun segja frá sinni reynslu af Parkinsonsjúkdómnum. Allir Parkinsongreindir og aðstandendur þeirra á Reykjanesi eru hvattir til að mæta.
bílaleiga leitar eftir
starfsfólki
Við leitum að hressu, skemmtilegu og metnaðargjörnu starfsfólki til að vinna með okkur í ört vaxandi fyrirtæki í þjónustu við ferðamenn. Viltu starfa á vinnustað þar sem þú virkilega skiptir máli en ert ekki einn af 100? Leitað er að starfsfólki í fullt starf og hlutastarf. • Afgreiðsla bílaleigubíla • Þrif og umsjón bílaleigubíla • Húsasmiður eða aðila með sambærilega menntun/reynslu. • Bílasprautari eða aðila með sambærilega menntun/reynslu. Umsókn skal senda ásamt ferilskrá (CV) á:
STARF@FAIRCAR.IS
Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2016.
Smábátafélagið Reykjanes með veglegar gjafir Reykjanes, félag smábátaeigenda á Reykjanesi, færði björgunarsveitum og bátasjóðum veglegar gjafir að upphæð ein milljón og fimmtíuþúsund krónur á aðalfundi sínum sem haldinn var í Salthúsinu í Grindavík nýlega. Forsvarsmenn björgunarsveitanna og bátasjóðanna tóku við gjöfunum sem hver um sig var 150.000 krónur. Á aðalfundi síðasta árs var ákveðið að gefa þessa styrki til björgunarmála og á aðalfundinum í síðustu viku fór formleg afhending fram. Þeir sem
hlutu styrk frá Reykjanes, félagi smábátaeiganda á Reykjanesi voru: Björgunarsveitin Þorbjörn, Björgunarsveitin Suðurnes, Björgunarsveitin Ægir, Björgunarsveitin Sigurvon, Björgunarsveitin Skyggnir og Björgunarbátasjóðir Grindavíkur og Suðurnesja. Á næsta ári fagnar félagið 30 ára afmæli en fjöldi félagsmanna er um hundrað manns. Formaður þess er Þorlákur Halldórsson. grindavik.net greinir frá.
Tveir nýliðar í liði Sandgerðis í Útsvari ■■Lið Sandgerðis í spurningaþættinum Útsvari á RÚV í vetur skipa þau Bylgja Baldursdóttir, Sigursveinn Bjarni Jónsson og Bergný Jóna Sævarsdóttir. Sandgerði tók fyrst þátt í Útsvari árið 2013 og hefur Bylgja verið í liðinu síðan þá. Þau Sigursveinn og Bergný eru að taka þátt í Útsvari í fyrsta sinn. Fyrsta viðureign Sandgerðis verður gegn Rangárþingi eystra föstudaginn 14. október.
Auglýsingasíminn er
421 0001
#dominos365
DOMINO’S-DEILDIN 2016 –2017
Við skorum á þig að mæta á völlinn Suðurnesjaliðin eru tilbúin í komandi átök í Domino’s-deildinni – og gott betur. Við hlökkum til að sjá þig á vellinum í vetur. Domino’s er stoltur aðalstyrktaraðili besta körfubolta landsins.
KEFLAVÍK
Guðmundur Jónsson
KEFLAVÍK
Thelma Dís Ágústsdóttir
NJARÐVÍK
Björk Gunnarsdóttir
GRINDAVÍK
NJARÐVÍK
Ólafur Ólafsson
Logi Gunnarsson
GRINDAVÍK
Íris Sverrisdóttir
KARLAR
KONUR GRINDAVÍK–KEFLAVÍK 8. okt. kl. 16:30
SKALLAGRÍMUR–GRINDAVÍK 12. okt. kl. 19:15
SNÆFELL–NJARÐVÍK 9. okt. kl. 19:15
NJARÐVÍK–STJARNAN 12. okt. kl. 19:15
KEFLAVÍK–HAUKAR 12. okt. kl. 19:15
GRINDAVÍK–ÞÓR ÞORLÁKSHÖFN 6. okt. kl. 18:00 NJARÐVÍK–KEFLAVÍK 7. okt. kl. 18:15
10
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 6. október 2016
ÓUMFLÝJANLEG BROTTFÖR
●●segir Friðþór Eydal, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Varnarliðsins. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Varnarliðsins segir að brotthvarf Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli hafi verið óumflýjanlegt í kjölfar þess að kalda stríðinu lauk. Hann segir ástandið á gamla varnarsvæðinu, nú Ásbrú, miklu eðlilegra og með skynsamlegri ásýnd en þegar bandarískur her var á Vellinum. Hvernig voru síðustu daga hersins og aðdragandi brotthvarfs Varnar liðsins? Aðdragandinn var náttúrulega langur og hófst í raun strax við lok kalda stríðsins í kringum 1990. Þá fóru strax að heyrast raddir um samdrátt sem fljótlega var hrint í framkvæmd af skiljanlegum ástæðum en svo gekk þetta í bylgjum næstu fimmtán árin, allt eftir því hve mikla athygli þetta fékk í bandaríska stjórnkerfinu. Eftir á að hyggja var þetta óumflýjanlegt og ég er viss um að ef þetta hefði ekki gerst árið 2006 þá hefði þetta gerst á árunum eftir, sama hvað hefði verið samið um. Einfaldlega vegna þeirra stríða og athafna sem Bandaríkjastjórn stóð í víða um heim. Orsök þess var einfaldlega að það var ekki lengur hægt að verja þetta úthald á Íslandi að því er virtist engum til gagns, á meðan Bandaríkjamenn stóðu blóðugir upp yfir axlir í styrjöldum útí heimi og þurftu á peningum, mannafla og búnaði að halda. Við Íslendingar héngum á þessu varnarliði eins og hundur á roði og gáfum lítið eftir í samningaviðræðum hvað það varðar, - á pólitíska sviðinu, er það ekki? Íslendingar skiptust í mörg horn alla tíð hvað veru varnarliðsins hér varðaði. En íslensk stjórnvöld tóku snemma þá ákvörðun að vera ekki að reyna að kljást við NATO eða Bandaríkjamenn á grundvelli einhverrar herfræði því sérþekking þeirra var ekki þar. Þeir voru hins vegar vel að sér í pólitík. Og nálgunin frá Íslandi var alltaf á pólitískum nótum. Samskiptin fóru fram meðal ríkisstjórnanna. Þegar kom að því að herinn vildi breytingar þá tóku menn í þá taktík sem þeir þekktu og notuðu hana eins og þeir höfðu gert áður fyrr. Nú hef ég heimildir fyrir því að það séu margir sem telja að ef Íslendingar hefðu reynt að fara frekari samningsleiðir um að halda varnarliðinu hér í einhverri mynd þá hefðu það ekki farið í öllu sínu veldi, heldur skilið
eftir eitthvað af sinni starfsemi. Hvað segir þú við því? Þetta er mjög skiljanleg afstaða og dálítið sem ég hef verið að rannsaka. Ég var nú vitni að ýmsu í þessu sambandi á árunum sérstaklega eftir 2001 þar til loka og ég er nú þátttakandi í sjónvarsþáttagerð um sögu varnarliðsins þar sem við komum til með að taka á þessu, meðal annars með viðtölum við menn sem komu þarna nærri og vonumst til að leiða það í ljós á hvorn veginn þetta var. Þó það hefði tekist að semja um einhvern samdrátt þá hefði hann í fyrsta lagi verið verulegur og alltaf falið í sér að orrustuþoturnar hefðu farið. Á endanum hefði liðið alltaf verið kallað allt til baka. Nú þegar þú lítur til baka tíu árum síðar, þekkjandi söguna svona vel og hafandi verið í hringiðunni, hvernig er þín sýn á þetta núna? Ég hef nú eiginlega horft svolítið til þeirrar umræðu sem hefur verið uppá síðkastið að það virðist vera einhver óskhyggja hjá sumum að bandaríkjaher komi aftur til Keflavíkurflugvallar. Þessa spurningu hef ég fengið reglulega því ég hef unnið að þessum málum áfram hjá Isavia en því er nú til að svara að svo er áreiðanlega ekki. Bandaríkjamenn voru hér fyrst og fremst á eigin vegum eins og hvert annað ríki sem er ekki í neinni góðgerðarstarfsemi. Og það vildi bara svo til að hagsmunir Íslendinga fóru vel saman með hagsmunum Bandaríkjanna og annarra landa á árum kalda stríðsins. Komi þeir aftur hér með einhverjum hætti þá verður það bara í hagræðingarskyni eins og hefur alltaf verið gert, miðað við þau verkefni sem upp kunna að koma eða fyrir liggja á hverjum tíma. Nú ferð þú, eftir störf hjá Varnar liðinu, til starfa hjá Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar, síðar Isavia. Hvernig gekk svo Íslendingum að taka við stórum verkefnum frá Varnarliðinu, eins og t.d. slökkviliði og fleiru tengdum fluginu?
Friðþór Eydal gegndi starfi upplýsingafulltrúa Varnarliðsins í langan tíma.
Aðdragandinn var mjög skammur því að menn trúðu því ekki, eða allavega voru engin merki um það að þessi gríðarlega breyting yrði með eins skjótum hætti og raunin varð. Og mér finnst með ólíkindum hve klárir menn voru að vinna úr þeirri þröngu stöðu sem upp kom strax og ákveðið var að Varnarliðið færi þarna í mars 2006. Markmiðið var að halda Keflavíkurflugvelli áfram í starfsemi. Allur reksturinn á flugvallarþjónustunni og flugvellinum sjálfum var í höndum Varnarliðsins. Þetta þurfti að færa yfir og ekki síst fjármagn. Íslenska ríkið þurfti skyndilega að punga út 1,7 milljarði strax árið eftir til að halda úti rekstrinum. Tækjabúnaðurinn var allur eign Bandaríkjaflota og það varð að semja um að halda honum þannig þeir færu ekki bara með allt sitt einn daginn og það var ekkert hlaupið að því að útvega ný og dýr tæki og tók líka langan tíma. Þetta tókst með ágætum, að semja um áframhaldandi afnot af tækjum hersins. Svona var með marga fleiri þætti, og mér finnst með ólíkindum hvað tókst að gera með samstilltu átaki allra sem komu að þessu, stjórnvalda, starfsmanna og stjórnenda flugvallarins.
með tilheyrandi umsvifum hjá Varnarliðinu þá erum við náttúrulega að tala um hernaðarumsvif sem í engu tilliti eru í raun æskileg. Þó það hafi verið gaman að taka þátt í þessu þá var þetta í hæsta máta óeðlilegt ástand sem hér ríkti. Hér var erlendur her í stórum stíl í landinu. En núna er þetta allt með miklu eðlilegri og skynsamlegri ásýnd.
Finnst þér þá ekki ánægjulegt að sjá hve blómleg starfsemin er orðin hér víða á Vellinum, nú Ásbrú? Jú, hér hefur gríðarlega miklu verið áorkað og margir sem hafa komið með góðar hugmyndir og hefur tekist ágætlega til. En þegar ég fer aftur til gamla tímans, á 8. og 9. áratugnum
Hvernig upplifðir þú andrúmslofið daginn sem tilkynnt var um brotthvarf hersins og dagana þar á eftir? Ég hafði náttúrulega fylgst með þessu öll þessi ár og sá vel í hvað stefndi þótt ég hafi ekki búist við því að þessi ákvörðun kæmi með þessum hætti á þessum tíma. En þá verð ég
Ertu með skoðun á því hvernig ríkið kom að þessu og hvað Suðurnesin, sem næsti nágranni veitti með þjónustu og starfsfólki, hefði átt að fá fyrir hálfrar aldrar þjónustu og tryggð? Ég hef í sjálfu sér ekki myndað mér skoðun á því en það er auðvitað þekkt klisja að það var alltaf sagt að Suðurnesin hafi haft varnarliðið og flugvöllinn þegar átti að deila út landsgæðum eða efnahagsgæðum á vegum ríkisins. Sem betur fer hefur orðið gríðarleg umbylting í umsvifum í tengslum við flugið á Keflavíkurflugvelli ekki síst nú á allra síðustu árum. Þá náttúrulega skiptir það algjörlega sköpum. Það er ekki langt síðan hér var nánast margt í kalda koli, atvinnuleysi og margt annað hér á Suðurnesjum sem virðist nú vera komið í betra horf.
að bæta því við að strax um áramót var okkur ljóst í aðalstöðvum Varnarliðsins hvað til stæði þótt að tímasetningin lægi ekki alveg fyrir. Það sást í fjárveitingum til Varnarliðsins fyrir árið 2007, sem voru engar. Það gat í raun ekki þýtt nema eitt, hvað sem mönnum aftur á móti tækist að teygja lopann og semja um, var auðvitað ekki vitað á þeim tíma. En í mars 2006 kemur þessi ákvörðun. Bandaríkjamenn voru margir jafn hissa á þessu og Íslendingarnir og ekki laust við að þeir væru margir hálf skömmustulegir yfir þessu, sérstaklega að viðskilnaðurinn yrði að vera svona óvæntur og framkvæmdur með svona skjótum hætti. Það að það liðu ekki nema 6 mánuðir frá því að skipunin er gefin og þangað til hún hefur verið framkvæmd til fulls, er umtalsvert afrek. Bæði hjá Bandaríkjamönnum sjálfum og svo íslensku starfsmönnunum. Þetta var svolítið sérstök upplifun en svo tók bara við þetta verkefni, að loka herstöðinni, koma mannskapnum á brott, flytja á brott það sem ákveðið var að taka með sér og það tók bara hug allra alveg fram á síðasta dag. Síðan má eiginlega segja að menn hafi bara andað léttar daginn eftir og sagt „ja, nú er þetta búið“. Nýr kafli í lífinu er að taka við. Þetta er bara eins og þegar menn skipta um vinnuvettvang eftir mjög langan tíma eins og var í mínu tilviki og ekki síst hjá mörgum öðrum sem höfðu verið hér mikið lengur en ég.
fimmtudagur 6. október 2016
11
VÍKURFRÉTTIR
Brotthvarf hersins líkt og jarðskjálfti ●●Segir launakjör á Suðurnesjum hafa versnað á Suðurnesjum eftir að varnarliðið fór l Áfall fyrir fólk að missa starfið eftir áratugi á sama stað „Það var líkt og það hefði komið stór jarðskjálfti. Fólk var auðvitað skelfingu lostið,“ segir Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja um stemminguna í loftinu á Suðurnesjum þegar tilkynnt var um brotthvarf hersins í mars árið 2006. „Þegar fólk sér fram á að vera að missa framfæri og vinnu sem það er búið að ástunda áratugum saman, þá er það auðvitað mikið áfall. Það var allt undirlagt á sínum tíma og ég skil það vel að það fólk sem missti vinnuna sína skyldi eiga erfitt næstu vikur og mánuði á eftir,“ segir hann. Um síðustu aldamót unnu um 1500 Íslendingar fyrir varnarliðið og Guðbrandur segir veru þess hér á landi því hafa skipt verulegu máli fyrir þjóðarbúið í heild sinni. Vera varnarliðsins hafði mikla þýðingu fyrir atvinnulífið á Suðurnesjum og segir Guðbrandur það ekki síst hafa verið vegna þess að þá voru ekki margir stórir vinnuveitendur á svæðinu, minnkandi kvóti og ekki nándar nærri eins mikil starfsemi á Keflavíkurflugvelli og í dag þó að hún hafi verið talsverð.
Laun flestra lækkuðu
Samfélagið fékk ákveðinn aðdraganda að brotthvarfi varnarliðsins og segir Guðbrandur uppsögn 100 starfsmanna varnarliðsins árið 2003 hafa markað upphafið. „Við fengum skell þá og það var vísbending um það sem koma skyldi.“ Starfsmönnum varnarliðsins gekk mis vel að finna ný störf
dæmis voru félagsmenn í Verslunarmannafélagi Suðurnesja ekkert langt á eftir félagsmönnum í VR á meðan varnarliðsins naut við en það breyttist þegar það fór.“
Vill að Ásbrú tengist Reykjanesbæ betur
Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja
og segir hann elsta fólkið hafa átt í hvað mestum vandræðum. Þó hafi stéttarfélögin verið sæmileg undirbúin. „Það var gripið til ráðstafana strax þegar þetta gerðist. Sveitarfélagið Reykjanesbær var öflugt og stéttarfélögin settu upp vinnumiðlun til viðbótar við það sem Vinnumálastofnun var að gera, til að auka möguleika á að útvega fólki vinnu. Ég held að það hafi tekist bærilega.“ Flestir fengu vinnu en Guðbrandur segir launin í fæstum tilvikum hafa verið jafn góð og fólk hafði fengið hjá varnarliðinu sem greiddi hærri laun en viðgengst á þeim tíma og var eftirsóttur vinnuveitandi. „Launakjör á svæðinu lækkuðu verulega þegar varnarliðið fór. Til
Gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli hefur nú verið umbreytt og er kallað Ásbrú. Guðbrandur segir sumt við breytingarnar hafa tekist vel en annað ekki. Ánægjulegt sé að sjá sprotafyrirtæki dafna þar, gagnaverin og fleiri fyrirtæki, sem og skólann Keili sem hafi lyft grettistaki. „Það sem miður fór var að menn fóru í ævintýramennsku og ætluðu sér að kaupa upp nánast heilt byggðarlag en gátu svo ekki staðið undir því. Hús sem voru seld þurfti ríkið að leysa til sín aftur og það tafði uppbyggingu.“ Guðbrandur segir einnig miður að ríkisvaldið hafi leyft sér að setja sér lög fyrir sjálft sig til að sleppa við að greiða fasteignaskatta af byggingum á Ásbrú. „Reykjanesbær fékk því ekki þær tekjur af fasteignum sem honum bar og ber í raun og veru. Þetta er svona hægt og rólega að breytast. Við skulum vona að flest þessi hús komist í notkun mjög fljótlega svo þetta verði stórt og öflugt samfélag til framtíðar.“ Þá segir hann mikilvægt að tengja gamla varnarsvæðið betur við Reykjanesbæ svo það verði ekki aðeins sveitarfélag sem kallað er Ásbrú heldur eitt af hverfum Reykjanesbæjar.
Varnarliðið var góður vinnuveitandi ●●Uppgangur á þeim tíma þegar varnarliðið fór svo flestir fengu fljótlega nýja vinnu l Betri laun og vinnuaðstæður hjá varnarliðinu en almennt á vinnumarkaði „Fyrir marga starfsmenn varnarliðsins var uppsögnin áfall,“ segir Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðsog sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis um lok starfsemi Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli haustið 2006. Hann bendir á að sumir starfsmanna varnarliðsins hafi unnið þar nær alla sína tíð og því hafi uppsögnin ef til vill verið meira áfall fyrir þann hóp en aðra. Hjá varnarliðinu störfuðu tæplega 600 manns í byrjun árs 2006 en hafði þá fækkað nokkuð, til að mynda voru þeir um 760 í árslok 2003. Þá eru ótaldir hundruðir starfsmanna hjá ýmsum verktakafyrirtækjum. Kristján segir áhrifin af veru varnarliðsins á atvinnulífið í nærsamfélaginu hafa verið mikil. „Hér voru þvottahús, veitingahús og ýmis þjónusta. Ég færi ekkert á límingunum þó að herinn kæmi aftur. Í því myndu felast atvinnutækifæri á Suðurnesjum enda var hann eins og stóriðja.“ Þegar tilkynnt var um brottför hersins í mars 2006 var á vegum stéttarfélaganna í Reykjanesbæ, í samvinnu við bæjarfélagið, haft samband við alla þá sem fengu uppsagnarbréf og boðin fram aðstoð við atvinnuleit. Þar fékk fólk til að mynda leiðbeiningar um gerð starfsferilskrár. Kristján segir það hafa aukið sjálfstraustið hjá mörgum að setja alla sína reynslu niður á blað; öll námskeið og réttindi sem það hafði öðlast. „Þetta hjálpaði fólki svo í atvinnuleitinni.“ Aðstoðin var óformleg og búin til á staðnum en Kristján segir hana engu að síður hafa gangast fólki. Það orðspor fór af varnarliðinu að það væri góður vinnuveitandi og segir Kristján svo hafa verið enda eftirsótt að vinna þar. „Það þurfti aldrei að innheimta stéttarfélagsgjöld eða annað frá varnarliðinu fyrir dómstólum. Herinn fór í einu og öllu eftir samningum. Þar
skrítnir því brottför varnarliðsins þótti svo fjarstæðukennd.“ Hann segir að verkalýðsforkólfar um landið hafi heldur ekki haft mikla samúð með Suðurnesjamönnum þegar varnarliðið fór og að ríkið hafi ekki á neinn hátt veitt byggðaaðstoð til að takst á við atvinnumissi svo margra.
Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis
að auki greiddu þeir góð laun og hærri en almennt tíðkaðist á vinnumarkaði hér á Suðurnesjum.“ Þá segir Kristján að fólk sem vann hjá varnarliðinu hafi margt upplifað í fyrsta sinn að geta lifað af því að vinna átta stunda vinnudag en það þekktu fæstir. „Hjá varnarliðinu fékk fólk líka boðlegri vinnuaðstæður en víða annars staðar. TIl dæmis hvað varðaði hreinlæti og öryggismál. Það var því margt sem gerði varnarliðið að góðum vinnuveitanda og fólk talaði um muninn þegar það fór svo að vinna annars staðar eftir að herinn fór.“ Nokkrum árum áður en herinn fór var umræða á Suðurnesjum um að sú staða gæti komið upp. Kristján fór þá ásamt Jóhanni Geirdal, þáverandi formanni Verslunarmannafélags Suðurnesja, á fund Steingríms Hermannssonar, þáverandi forsætisráðherra til að ræða um undirbúning ef til þess kæmi. Kristján segir fólk utan Suðurnesja almennt ekki hafa deilt áhyggjum þeirra. „Það var horft á okkur eins og við værum eitthvað
Kristján segir að þrátt fyrir allt þá hafi brottför varnarliðsins borið upp á góðum tíma því nokkur uppgangur hafi verið árið 2006. Flestir félagsmanna VSFK fengu því önnur störf fljótlega og segir hann að innan við tíu af þeim hafi verið í atvinnuleit um lengri tíma. „Þegar maður lítur um öxl sér maður hvað brottför hersins var risavaxið verkefni og líka hvað við fórum vel í gegnum það og ég er kátur með að ekki hafi farið verr.“ Þegar hrunið kom svo árið 2008 voru margir fyrrum starfsmenn varnarliðsins nýbyrjaðir í nýjum störfum og segir Kristján þann hóp hafa verið veikari fyrir en aðra. Margir hverjir höfðu skipt um vettvang og því ekki verið með langan starfstíma á nýja staðnum og því hafi hrunið ef til vill komið verr niður á einhverjum úr þeim hópi en ella.
Meira áfall gagnvart atvinnu en nokkurt sveitarfélag á Íslandi hafði upplifað ●●segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar um það þegar Varnarliðið fór frá Keflavíkurflugvelli fyrir áratug síðan „Í lok mars mánaðar 2006 hafði öllum íslenskum starfsmönnum Varnarliðsins verið sagt upp störfum og aðeins 6 mánuðum síðar, þann 30. september, flaug síðasta flugvélin með hermenn frá yfirgefinni herstöð á Miðnesheiði. Varnarstöðin á Miðnesheiði, þar sem fjögur þúsund manns bjuggu og störfuðu, varð á aðeins sex mánuðum yfirgefinn bær – „draugabær“, sögðu sumir,“ segir Árni Sigfússon en hann var bæjarstjóri Reykjanesbæjar þegar Varnarliðið fór frá Keflavík, - með manni og mús. Og Árni segir: „Um 2800 hermenn og fjölskyldur þeirra höfðu yfirgefið íbúabyggðina á Keflavikurflugvelli á þessum sex mánuðum. Nú ríkti þögn á heimilum, í leikskólum, skemmtistöðum, kvikmyndahúsi, grunnskóla, framhaldsskóla og verslununum. Engin störf í skrifstofu,- byggingar,og viðhaldsstörfum, hvað þá flókinni öryggis- og tækniþjónustu við flugherinn. 1100 íslenskir starfsmenn misstu störf sín. Þeir voru fyrirvinnur fjölskyldna, höfðu margir starfað áratugum saman í þjónustu við Varnarliðið og tengda aðila því þetta hafði verið góður og öruggur vinnustaður. Af þessum fjölda voru tæplega 600 íslenskir starfsmenn beint undir Varnarliðinu. Flestir þeirra voru á aldrinum 40 til 60 ára. Að auki misstu um 300 starfsmenn íslenskra verktakafyrirtækja og annarra þjónustufyrirtækja störf sín. Viðskipti fjölskyldna og stofnana af Vellinum voru tíð í bænum okkar. Um 150 til 200 margvísleg tengd þjónustustörf hurfu eitt af öðru á skömmum tíma. Þetta var því meira áfall gagnvart atvinnu en nokkurt sveitarfélag á Íslandi hafði upplifað, allavega frá því að síldin hvarf á 7. áratug síðustu aldar. Um 900 rúmgóðar fjölskylduíbúðir, með amerísku ísskápana og öll stóru heimilistækin, auk 1100 fullbúinna einstaklingsíbúða, stóðu auðar. Alls 210 þúsund fermetrar af íbúðarhúsnæði. Það atvinnuhúsnæði sem nú stóð autt á varnarsvæðinu samsvaraði í fermetrum allri verslunarmiðstöðinni Smáralind og að auki Hörpu, menningarhúsi þjóðarinnar. Hvað var til ráða? Áttum við að leggja hendur í skaut og lýsa yfir neyðar-
Árni Sigfússon
ástandi? Áttum við að líta á brotthvarf hersins sem áhugavert nýsköpunartækifæri í íslensku samfélagi? Við völdum síðari kostinn. Plógjárn skyldu smíðuð úr sverðunum! Nú, 10 árum síðar, hefur herstöð verið breytt í nýsköpunar- og skólasamfélag. Hér búa um 2000 manns og yfir 700 manns starfa að Ásbrú. Í sprengjugeymslum æfa ungir Íslendingar ballett og danslist. Í gömlum flugskýlum og viðgerðarverkstæðum hafa verið gerðar kvikmyndir og haldnar tónlistarhátíðir. Þau hýsa einnig vélbúnað Landhelgisgæslu og nýjan flugskóla Keilis, þar sem nemendur frá mörgum þjóðum sækja nám. Húsnæði menntaskóla hersins hefur verið breytt í miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, undir nafni Keilis. Reykjanesbær endurvakti grunnskólann og gaf honum heitið Háaleitisskóli. Tveir leikskólar eru reknir á svæðinu, Háaleiti og Völlur. Íbúðarhúsnæði hersins hefur einnig verið breytt í gististaði og hótel af bestu gerð. Vöruhús hersins hýsa nú m.a. rafræn gagnaver. Hér er risið þörungagróðurhús og um 50 frumkvöðlafyrirtæki eiga nú athvarf á svæðinu. Uppgangur þessa svæðis er erlendis tekinn sem dæmi um vel heppnaða umbreytingu á varnarstöð, þar sem mörg önnur samfélög hafa staðið ráðþrota í sömu sporum. Við getum verið stolt af þessu nýjasta hverfi í Reykjanesbæ.“
12
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 6. október 2016
Allir meðlimir Unknown Bikers koma frá Póllandi en það er þó ekki skilyrði fyrir inngöngu, heldur eru allir velkomnir í félagsskapinn. Á myndinni má sjá frá vinstri Tomasz Losiewicz, Arkadiusz Zarzycki, Wociech Julkiewicz , Damian Geriak og Marcin Dobrzynski. VF-mynd/dagnyhulda
LEÐURKLÆDDIR
LJÚFLINGAR ●●Pólskir mótorhjólakappar í Unknown Bikers láta gott af sér leiða. l Fluttu til Íslands til að vinna og segja gott að búa á Íslandi.
Félagar í mótorhjólaklúbbnum Unknown Bikers eru allir frá Póllandi og búsettir á Íslandi en segja það þó alls ekki skilyrði fyrir inngöngu í klúbbinn að vera pólskur að uppruna, heldur séu allir velkomnir. Í hópnum er mótorhjólafólk af Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, frá Akranesi, Ísafirði og víðar. Flestir hafa þeir ekið hringinn í kringum Ísland og sumir oftar en einu sinni. Blaðamaður Víkurfrétta hitti þá Arkadiusz Zarzycki, Tomasz Losiewicz, Damian Geriak, Wociech Julkiewicz og Marcin Dobrzynski á kaffihúsi á dögunum. Eins og mótorhjólaköppum er von og vísa voru þeir klæddir í leður frá toppi til táar og nokkrum kaffihúsagestum brá örlítið í brún við að sjá þá hópast inn á kaffihúsið. Unknown Bikers mótorhjólaklúbbar eru starfræktir víða um heim en sá fyrsti var stofnaður í Bandaríkjunum. „Við erum nú bara venjulegt fólk og keyrum saman, höldum partý og spjöllum,“ útskýrir Damien. Þeir hafa einnig látið gott af sér leiða og á dögunum gáfu þeir leikskólanum Hjallatúni bækur á pólsku til að nota við móðurmálskennslu barna af pólskum uppruna. Einn félagi þeirra úr klúbbnum er alvarlega veikur og hafa þeir stutt við bakið á honum og fjölskyldu hans.
Mun lægri laun í Póllandi
Allir fluttu félagarnir til Íslands vegna vinnu og hafa dvalið hér mis lengi. Þeir segja erfitt að fá góða, vel launaða vinnu í Póllandi og því hafi þeir ákveðið að flytja til Íslands með fjölskyldum sínum. „Í stórum bæjum og borgum í Póllandi er ástandið betra en á minni stöðum er þetta erfitt. Pólland er öðruvísi og mikil skriffinnska og háir skattar sem fylgja því að ráða fólk til vinnu,“ segir Marcin. Arek bætir við að fyrir vinnu í eina klukkustund
í Póllandi geti hann keypt þrjá lítra af bensíni en á Íslandi tíu lítra. Þeir eru allir sammála um að hafa ekki aðeins flutt til Íslands til að vinna heldur líka til að njóta lífsins. Þeir sakna Póllands og fara þangað í heimsókn að minnsta kosti einu sinni á ári. Þeir eru sammála um að gott sé að búa á Íslandi og segja lítið mál að bindast þeim innfæddu vinarböndum. Stundum hitta þeir félaga úr ýmsum öðrum mótorhjólaklúbbum. Pólland nýtur sífellt meiri vinsælda sem áfangastaður íslenskra ferðamanna og stundum þegar félagar Unknown Bikers ferðast þangað eru fleiri Íslendingar um borð í flugvélunum en Pólverjar. Þeir leggja áherslu á að Pólland sé fallegt land þar sem margt er að skoða.
Hjóla um allt Ísland
Síðasta sumar fóru nokkrir meðlimir Unknown Bikers hringinn í kringum Ísland og óku þá 2430 kílómetra á einni viku. Eins og áður sagði býr einn meðlimanna á Ísafirði og kíktu þeir í heimsókn til hans í leiðinni. Af uppá-
halds stöðum á Íslandi nefna þeir Aldeyjarfoss, Barnafossa, Egilsstaði og Raufarhöfn. Þeir hafa allir átt mótorhjól síðan á unglingsárum. Marcin kom með sitt hjól með sér með Norrænu þegar
hann flutti til Íslands fyrir rúmlega þremur árum. „Það er svo gaman að vera á mótorhjóli, bara að hjóla eitthvert. Stundum á ég ekki bíl en ég á alltaf mótorhjól,“ segir hann. Arek á tvö mótorhjól á Íslandi og tvö í Pól-
landi. Þegar Wojtek seldi mótorhjólið sitt eitt sinn grét dóttir hans sig í svefn, svo ljóst er að mótorhjólin eru meira en bara farartæki hjá Unknown Bikers og þeirra nánustu.
Við erum nú bara venjulegt fólk og keyrum saman, höldum partý og spjöllum
FARTÖLVURÝMING
UÐ BRJÁLUN ! LÆKK
-30%
-40%
-25%
KLÁRAST Á LAUGARDAG !" KRAFTMIKIL i3
FARTÖLVA Á 29.995!
29.995
69.995
-20.0 00 LÆKK UN
ÁÐUR 49.995
Intel
NEX-NXW10QC32G
14" Á 25% AFSLÆTTI
MINNI
1GB
ÁÐUR 99.995
32GB
10.1"
ASU-F554LAXO1091P
29.995
-30.0 00
ÁÐUR 39.995
LÆKK UN
Intel i3
MINNI
4GB
500B
15,6"
-10.00 0 LÆKK UN
Intel
ASU-E402SAWX013T
MINNI
2GB
32GB
-20%
-21%
14"
-17%
-20% STÓR 17,3" SKJÁR
54.995 ÁÐUR 69.995
ACE-NXMZSED023
INTEL i3 OG SSD
79.995
-15.00 0 LÆKK UN
Intel
MINNI
ÁÐUR 99.995
4GB
500GB
17,3"
ACE-NXMPGED058
FARTÖLVA OG SPJALDTÖLVA
INTEL i3 OG HD5500
59.995
-20.0 00 LÆKK UN
Intel i3
MINNI
4GB
ÁÐUR 74.995
128GB
13,3"
49.995
LÆKK UN
-15.00 0
ACE-NXGCEED060
Intel i3
MINNI
ÁÐUR 59.995
4GB
500GB
15,6"
ACE-NTG5CED002
-10.00 0 LÆKK UN
Intel Atom
MINNI
2GB
532GB
10,1"
HAFNARGATA 90 · REYKJANESBÆ · 414 1740 · WWW.TL.IS
t
FRYSTIKISTUR
Í ÖLLUM STÆRÐUM
VERSLIÐ Í HEIMABYGGÐ
SAMA VERÐ UM LAND ALLT
Týpa
Lítrar nettó
Hæð x breidd x dýpt
Körfur
Ljós
Lás
ECO stilling
Frystigeta 24 klst.
Orkuflokkur
VERÐ
FR102L
102
85 x 56 x 52
1
-
-
-
8 kg
A+
26.995
FR249
249
85 x 99 x 60
1
-
-
-
10 kg
A+
44.995
WHS1021
100
86 x 53 x 57
-
-
-
-
9 kg
A+
39.995
WHS1421
133
89 x 57 x 64
1
-
-
-
13 kg
A+
44.995
WHS2122
204
81 x 80 x 64
1
-
-
-
15 kg
A+
49.995
WHM2511
251
92 x 101 x 70
1
Já
Já
Já
18 kg
A+
54.995
WHM3111
311
92 x 118 x 70
2
Já
Já
Já
20 kg
A+
59.995
WHM31112
311
92 x 118 x 70
2
Já
Já
Já
20 kg
A++
69.995
WHM3911
390
92 x 140 x 70
3
Já
Já
Já
17 kg
A+
64.995
WHM4611
437
92 x 141 x 70
4
Já
Já
Já
21 kg
A+
79.995
VIÐ ERUM Í REYKJANESBÆ
HAFNARGÖTU 90 - SÍMI 414 1740
ht.is 7 VERSLANIR UM LAND ALLT
14
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 6. október 2016
AÐALFUNDUR Kakan er alveg nógu stór TÓNLISTARFÉLAGS REYKJANESBÆJAR verður haldinn 13. október 2016 kl.17:00 í Rokksafni Íslands, Hljómahöll Á dagsskrá eru venjubundin aðalfundarstörf. Félagar eru sérstaklega hvattir til að mæta. Stjórnin
LEIKHÚSFERÐ Félags eldri borgara verður farin 30. okt 2016. Farið verður í Þjóðleikhúsið að sjá „Djöflaeyjuna“ Farið frá SBK kl. 17:30, komið við í Hornbjargi, Nesvöllum, Grindavíkur og Vogatorgi. Sýningin hefst kl. 19:30. Miði og rúta kr. 6.500,Pantanir hjá Ólu Björk síma 898-2243 , Björgu 865-9897,Guðrúnu 659-0201 og Ásthildi 861-6770. Miðar seldir á Nesvöllum miðvikudag 19. október kl. 16:00-17:00. Erum ekki með posa. Leikhúsnefnd.
www.n1.is
●●Ef græðgin ræður því ekki hvernig henni er skipt
höllum fæti að ekki sé hægt að veita þeim mannsæmandi lífskjör vegna þess að við eyðum svo miklum peningum í hjálpa öðru fólki í brýnni neyð. Fólk sem stendur á sama um eða virðist ekki gera sér ekki grein fyrir að með orðum sínum er það að sá fræjum fordóma og haturs í garð þeirra sem þurfa svo mikið á stuðningi, skilningi og velvilja að halda og geta síst af öllum varið sig fyrir illvilja, illum orðum og illum verkum. Hvílík ósvinna og hvílík lágkúra!
Er ekki nóg að senda teppi? Enska ljóðskáldið John Dunne orti fyrir um 400 árum síðan: Enginn maður er eyland, einhlítur sjálfum sér. Sérhver maður er brot af meginlandinu, hluti veraldar. … Dauði sérhvers manns smækkar mig, af því ég er íslunginn mannkyninu. Spyr þú því aldrei, hverjum klukkan glymur. Hún glymur þér. Hvenær mun okkur eiginlega skiljast að þetta er svona og hvað það þýðir? Hörmungar skekja Sýrland og íbúar þess flýja fósturjörð sína til þess að leita skjóls og finna frið. Mæður og feður reyna í örvæntingu sinni að koma börnum sínum undan stríðstólum valdasjúkra og siðalausra stríðsherra. Stríðsherra sem nota vopn sem framleidd eru á Vesturlöndum og eru rækilega studdir af Bandaríkjunum annars vegar og Rússum hins vegar. Þessar hörmungar af mannavöldum sem eru að leggja líf margra milljóna manneskja í rúst eru því að miklu leyti í boði ríkja sem vilja kenna sig við lýðræði, mannréttindi og frelsi en finnst þegar öllu er á botninn hvolft enn þá mikilvægara að græða á daginn og grilla á kvöldin. Og vilja lítið á sig leggja og alls engu fórna af forréttindum sínum og veraldlegum munaði. Er ekki bara hægt að senda þessu fólki teppi? Ekki viljum við þetta fá þetta fólk hingað, er það nokkuð?
vitaskuld ábyrgð á þeirri staðreynd að mannvonska og fáfræði gerir það að verkum að þau búa við aðstæður sem sviptir þau rétti og möguleika til að vita og skilja hvað náungakærleikur er. Að þau vita ekki hvað er að vera boðinn velkomin, að vera elskaður, að eiga fjölskyldu og öruggt skjól.
Kakan er nógu stór Margt af þessu fólki sem svona hugsar og talar styður stjórnmálaflokka sem mestar áhyggjur hafa af ónógum tækifærum þeirra ríku til að græða meira og tala fjálglega um að „stækka þurfi kökuna“. Því að þá munu allir fá meira þegar henni verður skipt og hún étin. Því að þá munu molar úr stóru kökunni hrökkva til þeirra sem er ekki boðið sæti við borðið þegar kakan er skorin í sneiðar og þeir gráðugu háma þær í sig. Kakan okkar er alveg nógu stór til þess að allir geti fengið sæti við borðið og fengið nógu stórar sneiðar. Og hún er alveg nógu stór til þess að við getum veitt fólki sem til okkar leitar í neyð sinni skjól, stuðning og virðingu og boðið fjölskyldum þess og börnum sæti við borðið með okkur, fjölskyldum okkar og börnum.
Við berum ábyrgð Við berum auðvitað öll og saman ábyrgð á börnum sem missa foreldra sína og systkini sem falla fyrir vestrænum morðtólum. Við berum að sjálfsögðu ábyrgð á því að þau geta ekki lifað áhyggjulaus og hlaupið létt og glöð út á leikvöll að róla sér eða vega salt. Við berum ábyrgð á því að þau mega þola skelfilegar misþyrmingar og misnotkun. Og við berum
Hvílík ósvinna og hvílík lágkúra Það er hræðilega dapurleg staðreynd að hér í okkar ríka velmegunarsamfélagi er fólk sem er tilbúið að loka á þessi börn og aðra sem neyðast til að flýja heimalönd sín vegna stríðshörmunga og ömurlegra aðstæðna. Það er til fólk í okkar friðsama og ríka landi sem virðist ekki sjá neitt athugavert að segja við eldri borgara og öryrkja og alla þá sem standa
Það eina sem þarf er viljinn til að láta réttlæti og mannúð stjórna orðum okkar, gerðum og gæta þess að þeir sem stjórnast af græðgi fái ekki að skipta kökunni og hlusta ekki á orð þeirra sem einkennast af lágkúru, fordómum og þröngsýni. Við kennum börnum okkar að sælla sé að gefa en þiggja og eigum auðvitað að sýna þeim það í verki að við meinum eitthvað með því.
Páll Valur Björnsson þingmaður Bjartrar framtíðar skrifar.
facebook.com/enneinn
Rúllaðu inn í veturinn á nýjum dekkjum Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is
Cooper Weather-Master WSC
Cooper Discoverer M+S
Cooper WM SA2+
Öflugt og gott grip við erfiðar aðstæður
Frábært neglanleg vetrardekk fyrir jeppa
Míkróskorið óneglanleg vetrardekk
Einstaklega endingargóð með mikið skorið snjómunstur
Afburða veggrip og stutt hemlunarvegarlengd
Nákvæm röðun nagla eykur grip á ísilögðum vegum
Mjúk í akstri með góða vatnslosun
Mikið skorið og stefnuvirkt munstur fyrir jeppa og jepplinga Flott dekk fyrir íslenskt veðurfar
Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða Fellsmúla Réttarhálsi Ægisíðu
440-1318 440-1322 440-1326 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ Reykjavíkurvegi Hafnarfirði Grænásbraut Reykjanesbæ Dalbraut Akranesi
440-1378 440-1374 440-1372 440-1394
Opið mán – fös kl. 08-18 www.n1.is
Hluti af vetrinum
FISKARS
DEVOLD
DIDRIKSONS
GARÐVERKFÆRI
ULLARFATNAÐUR
BARNAFATNAÐUR
CHAR-BROIL
VIKING OG SOREL
GRILLVÖRUR
BARNASKÓFATNAÐUR
LAGERHREINSUN Laugardaginn 8. okt. kl. 10–16 hjá Olís Njarðvík
ÚTSALA Ferðavörur frá COLEMAN, CAMPINGAZ, PRIMUS o.fl. 30–60% afsláttur Grill og grillvörur frá CHAR-BROIL 25% afsláttur Veiðivörur frá ABU, RAPALA og SHIMANO 40–60% afsláttur Hreinlætisvörur, pappír o.fl. 20–40% afsláttur
Samferða síðan 1927
Fitjabakka 2–4 • 260 Reykjanesbæ • Sími 420 1000 • njardvik@olis.is • olis.is
16
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 6. október 2016
Nutu NORÐURLJÓSA í geðshræringu
FÉLAGSÞJÓNUSTA SANDGERÐISBÆJAR, SVEITARFÉLAGSINS GARÐS OG SVEITARFÉLAGSINS VOGA
Atvinna
Spennandi starf verkefnastjóra fjölskylduverndar hjá félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Sv. Voga. Laus er til umsóknar 100% staða verkefnisstjóra á sviði fjölskylduverndar. Verkefnastjóri hefur umsjón með þróun og framkvæmd þjónustu sem miðar að því að efla foreldrafærni og forvarnir barna og fjölskyldna sveitarfélögunum. Hann sinnir meðferðaríhlutun inni á heimilum, utanumhaldi um stuðningsúrræði barnaverndar og uppeldislegri ráðgjöf. Menntun- og hæfnikröfur: • Háskólagráða í félagsráðgjöf, sálfræði, uppeldisfræði, þroskaþjálfun eða önnur menntun sem nýtist í starfi. • PMTO grunnmenntun og/eða meðferðarmenntun er æskileg. • Þekking og reynsla í vinnslu og meðferð mála með einstaklinga og fjölskyldur. • Góð samskiptahæfni, þjálfun í viðtalstækni og áhugi á teymisvinnu. • Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Umsókn ásamt kynningarbréfi og ferilskrá skal berast eigi síðar en 21. október 2016 á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar að Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði eða á netfangið gudrun@sandgerdi.is Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttafélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Björg Sigurðardóttir, félagsmálastjóri (gudrun@sandgerdi.is /420-7500).
VÖRÐUNNI MIÐNESTORGI 3 – 24 SANDGERÐI – SÍMI 420 7500
Fólk öskraði og aðrir grétu í geðshræringu yfir norðurljósasýningu á Garðskaga í síðustu viku. Mikil virkni var í norðurljósum fyrri part síðustu viku og kalt og heiðskírt veður, sem eru kjöraðstæður til að njóta norðurljósa. Fjölmargir söfnuðust saman á Garðskaga þar sem öll ljós, önnur en í vitanum, höfðu verið slökkt. Þannig voru skapaðar kjöraðstæður. Í gamla vitanum á Garðskaga var kaffihúsið opið langt fram á kvöld, þar sem hægt
Kynningarfundur
Slysavarnadeildarinar Kynningarfundur Slysavarnadeildarinnr Dagbjargar verður 10 október kl. 20:00 að Holtsgötu 51. Kynning á deildinni og gestur kvöldsinns verður
Sigga Dögg kynlífsfræðingur.
Vonumst eftir hlátrasköllum út á götu þega hún segir okkur allt um sexý slysavarnir. Allir velkomnir
RB
RB
RB
■■Yfirborð sólarinnar sendir í sífellu frá sér svokallaðan sólvind, en hann er straumur hlaðinna agna, aðallega róteinda og rafeinda. Segulsvið jarðar hrindir flestum þessum ögnum frá svo að þær streyma umhverfis hana eins og vatn um kjöl. Undantekning frá þessu er kringum segulpólana en það eru pólarnir sem segulnál vísar á, annar á norðurhveli og hinn á suðurhveli jarðar, gagnstætt við hinn. Á svæðum kringum þessa póla sleppur lítill hluti þessara agna inn í segulsvið jarðar. Svæðið þar sem flestar agnirnar sleppa inn myndar kraga utan um segulpólana. Hlöðnu eindirnar sem fara inn í segulsvið jarðar hreyfast á miklum hraða eftir gormlaga brautum kringum segulsviðslínurnar milli segulskautanna. Rafeindir og róteindir streyma þannig í átt að segulpólunum og þegar nær dregur pólunum rekast eindirnar á lofthjúpinn, oftast í á milli 100 og 250 km hæð. Orkan í rafeindunum og róteindunum örvar sameindir og frumeindir í lofthjúpnum en þær senda aftur á móti frá sér orkuna sem sýnilegt ljós sem við köllum norðurljós eða suðurljós eftir því við hvorn pólinn þau sjást. Litirnir sem við sjáum oftast eru grænn og rauð-fjólublár, en þeir stafa frá örvuðu súrefni annars vegar og örvuðu köfnunarefni eða nitri hins vegar. Eins og áður sagði eru áhrif sólvindsins mest á kraga kringum segulpólana og þar eru norður- og suðurljósin einnig mest áberandi. Á Íslandi erum við svo heppin að vera í norðurljósakraganum að nóttu til við eðlileg skilyrði. Breytingar í sólvindinum valda því hins vegar að kragarnir geta stækkað eða minnkað og sjást þá ljósin á mismunandi breiddargráðum. Sem dæmi um þess konar breytingar má nefna að sólin sendir stöku sinnum frá sér gífurlegt magn af efni út í geiminn, svokallaða sólstróka. Þegar þeir ná til jarðarinnar geta norður- og suðurljósakragarnir náð mjög langt í átt að miðbaug og dæmi er um að orðið hafi vart við ljósaganginn á sjálfum miðbaugnum.
SELUR ALLT
RB
dýrðin var upp á sitt besta, auk þess sem Íslendingar fjölmenntu einnig. Margir ferðamenn gista enn í ferðabílum á tjaldstæðinu á Garðskaga þrátt fyrir að október sé genginn í garð. Myndirnar með fréttinni voru teknar á miðvikudagskvöld í síðustu viku. Þá var spáð miklum og flottum ljósagangi. Það er hins vegar með náttúruöflin að þau hlusta ekki alltaf á spár, þennig að kvöldið endaði með ljósagangi sem fengi tvær stjörnur af fimm mögulegum. Vf-myndir: Hilmar Bragi
Af hverju stafa norður- og suðurljósin?
Heimild: Vísindavefur Háskóla Íslands
HEIÐARLEIKI - FAGMENNSKA - METNAÐUR
var að fá rjúkandi kaffi og nýbakaðar kleinur með ljósasýningunni. Garðskagi er einn besti staðurinn á landinu til að fylgjast með norðurljósum og þegar horfur eru á því að ljósin séu kröftug eru öll ljós slökkt utandyra á Garðskaga. Á næstunni verður staðarhöldurum á Garðskaga einnig gert kleift að slökkva á götulýsingu á skaganum, sem eykur enn á upplifun í norðurljósaskoðuninni. Talsvert var af erlendu ferðafólki á Garðskaga í síðustu viku þegar ljósa-
GR
GR
Þórarinn Kópsson
Páll Þorbjörnsson
Arnar Hólm
Elínborg Jensdóttir
Þorbjörn Pálsson
Dagbjartur Willardsson
Löggiltur fasteignasali
Aðstoðarmaður
Aðstoðarmaður
Aðstoðarmaður
Löggiltur fasteignasali
Aðstoðarmaður
Sími: 615-3343
Sími: 698-6655
Sími: 892-4445
Sími: 823-1334
Sími: 898-1233
Sími: 861-7507
RB ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALA SUÐURNESJA Hafnargata 91 - Reykjanesbær - sími 560-5515 sudurnes@alltfasteignir.is
GR ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALAN Í GRINDAVÍK Víkurbraut 46 - Grindavík - sími 426-8890 - grindavik@alltfasteignir.is
Sjónvarp Víkurfrétta • í háskerpu á vf.is
Áratugur frá brottför Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli
Fyrsti hluti samantektar Sjónvarps Víkurfrétta um brotthvarf Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli fyrir áratugi síðan er birtur í þætti vikunnar. Þátturinn var frumsýndur á ÍNN í gærkvöldi og er endursýndur á tveggja tíma fresti í allan dag. Lokasýning þáttarins er kl. 18:30 í dag en þáttinn má nálgast á vef Víkurfrétta, vf.is, í háskerpu. Í samantekt Sjónvarps Víkurfrétta eru bæði rifjuð upp viðtöl sem voru tekin í atburðarásinni fyrir áratug síðan en einnig eru ný viðtöl tekin nú tíu árum síðar. Í þætti þessarar viku er atburðarásin árið 2006 til skoðunar. Í næstu viku höldum við áfram að skoða brottförina og horfum einnig til áranna eftir að Varnarliðið fór. Hver er staðan í dag og hvernig eru framtíðarhorfur?
Einnig í þessum þætti
Náttúruperlur á Reykjanesi með augum Ellerts Grétarssonar
Sjáið umfjöllunina á vef Víkurfrétta, vf.is, í háskerpu.
Sjónvarp Víkurfrétta er í háskerpu á vf.is
18
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 6. október 2016
ATVINNA
GERÐASKÓLI ÓSKAR EFTIR KENNARA TIL AÐ KENNA Á YNGSTA STIGI Alls eru 207 nemendur í 1.-10. bekk í Gerðaskóla. Sjá nánar um skólann á www.gerdaskoli.is. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af kennslu og starfi með börnum. Gildi skólasamfélagsins í Garði eru: Árangur, virðing, gleði, leikur, sköpun, ábyrgð og lögð er áhersla á þau í starfi skólans. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að setja sig inn í starfshætti skólans og geta hafið störf sem fyrst. Um er að ræða 100% starf, umsjónarkennslu á yngsta stigi Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2016 Nánari upplýsingar veitir Jóhann Geirdal skólastjóri, johann@gerdaskoli.is og Ragnhildur Einarsdóttir, aðstoðarskólastjóri ragnhildur@gerdaskoli.is.
LAUS STÖRF LEIKSKÓLINN HOLT Leikskólakennari/starfsmaður AKURSKÓLI Skólaliðar LEIKSKÓLINN HEIÐARSEL Starfsmaður í afleysingar Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf eða beint á Ráðningavefinn https://reykjanesbaer.hcm.is/ storf/. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf.
Þórólfur Júlían Dagsson skrifar.
Verkefnisstjórar ásamt Ágústi Hirti Ingþórssyni, sviðsstjóra mennta- og menningarsviðs Rannís, og Guðmundi Inga Markússyni, sérfræðingi á mennta- og menningarsviði Rannís.
Holt hlýtur gæðamerki eTwinning Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ hlaut á dögunum gæðamerki frá Rannís, landskrifstofu eTwinning á Íslandi. Tólf önnur verkefni á Íslandi fengu einnig gæðamerki. Leikskólinn Holt hlaut gæðamerkið fyrir verkefnið Four headed dragon. Verkefnið var hluti af stærra Erasmus+ verkefni sem tengist lýðræði og læsi. Í eTwinning verkefninu bjuggu leikskólabörnin til sögur um dreka sem voru notaðar til þess að kanna ýmis málefni sem tengdust náttúru, samfélagi og tækni. Samstarfslöndin voru fjögur. Hrefna Sigurðardóttir og Anna Sofia Wahlström eru verkefnisstjórar.
eTwinning er aðgengilegt skólasamfélag á netinu þar sem hægt er að komast í samband við evrópska kennara og skólafólk, taka þátt í einföldum samstarfsverkefnum og sækja sér endurmenntun á vinnustofum og námskeiðum, svo nokkuð sé nefnt, allt með hjálp upplýsingatækni. eTwinning er hluti af Erasmus+ menntaáætlun ESB og var hleypt af stokkunum árið 2005. Í hverju landi er landskrifstofa sem styður þátttakendur endurgjaldslaust. Hér á landi gegnir Rannís því hlutverki. Yfir þúsund íslenskir kennarar hafa tekið þátt í eTwinning á einn eða annan hátt og telja samstarfsverkefnin brátt sjö hundruð.
Kynningarfundur um stefnumótandi stjórnunaráætlanir í ferðaþjónustu Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa boða til kynningarfunda um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana, Destination Management Plans - DMP, um landið og verður fundur á Reykjanesi haldinn á fimmtudaginn í næstu viku, 13. október klukkan 9:30. Á fundunum munu fulltrúar Ferðamálastofu og Stjórnstöðvar ferðamála kynna verkþætti og tímalínu verkefnisins auk þess sem skoski ráðgjafinn Tom Buncle mun fara ítarlega yfir eðli, markmið og tilgang slíkra
verkefna og hvernig þau geta nýst inn í framtíðarskipulag og þróun svæða. Fundirnir eru öllum opnir en þeir eru meðal annars ætlaðir fulltrúum sveitarfélaga, markaðsstofum, atvinnuþróunarfélögum, ferðaþjónum, upplýsingamiðstöðvum og öðrum þjónustuaðilum, svo sem öryggis- og viðbragðsaðilum, íbúum og fleirum. Skráning fer fram á vef ferðamálastofu www.ferdamalastofa.is
Þjóðin á þing Nýlega hlotnaðist mér sá heiður að taka þriðja sæti á lista Pírata í Suðurkjördæmi. Í aðdraganda kosninga fær frambjóðandi eins og ég ótal spurningar á hverjum degi, sem er alveg frábært. Ég reyni að svara öllum persónulega en stundum læðist ein og ein spurning framhjá. Oftast er maður spurður um almenn stefnumál en líka hvað við ætlum að gera fyrir fólk sem lifir undir framfærsluviðmiðum, fólk sem er í húsnæðisvandræðum, fólk sem á ekki fyrir lyfjakostnaði og margt fleira. Svörin við þessum spuringum er að finna í grunnstefnu Pírata. Við viljum virkja beint lýðræði, opnari stjórnsýslu og þannig opna innviði Alþingis fyrir almenningi. Það eykur aðhald í þeirri vinnu sem þar fer fram í nefndum og ráðum. Píratar vilja líka að það sé hægt að setja mikilvæg mál í þjóðaratkvæðagreiðslu til að þjóðin komi að ákvarðanatöku í fleiri málum. Þess vegna viljum við nýja stjórnarskrá þar sem tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar og að auðlindir íslendinga verði í eigu okkar allra. Við viljum að fólk geti lifað mannsæmandi lífi af launum sínum og þar horfum við til langtíma lausnar í formi borgaralauna. Þá hverfur hugtakið „bótakerfi“ og í staðinn kemur hugtakið „launakerfi“. En þangað til þarf að laga það kerfi sem er í dag með því að rétta hlut aldraðra, öryrkja og atvinnuleitenda. Það besta við okkur Pírata er að við erum venjulegt fólk sem hefur reynt á eigin skinni hvernig það er að lifa undir fátækramörkum, að missa heimilið sitt á uppboði, að eiga ekki fyrir lyfjum og lækniskostnaði. Við erum þverskurður af þjóðinni, frambjóðendur koma úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Það er þess vegna sem við viljum breytingar. Svo við öll getum lifað með reisn á þessu landi.
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
STARFSMANNAFULLTRÚI VIÐBURÐIR FORNSÖGUNÁMSKEIÐ Þriðjudaginn 11. október kl. 19:30 hefst námskeið í Hrafnkels sögu og Gunnlaugs sögu í Bókasafni Reykjanesbæjar undir stjórn Þorvaldar Sigurðssonar. Skráning í afgreiðslu safnsins eða á heimasíðu þess sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn HLJÓMAHÖLL - TRÚBROT FLYTUR LIFUN Tónlist hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Trúbrot verður flutt í Stapa þann 7. október kl. 21:00 - 23:30. Hljómsveitin mun m.a. flytja Lifun í heild sinni. Miðasala og nánari upplýsingar á hljomaholl.is JÓLIN, JÓLIN, JÓLIN KOMA BRÁTT Menningarráð Reykjanesbæjar óskar eftir skemmtilegum hugmyndum frá bæjarbúum að viðburðum sem lífgað gætu upp á skammdegið í aðdraganda jóla. Sendið hugmyndir á menningarfulltrui@reykjanesbaer.is eða í síma 421-6700.
Auglýsingasíminn er
421 0001
Samkaup hf. óskar eftir starfsmanni á starfsmannasvið félagsins. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í krefjandi umhverfi á skrifstofu félagsins í Reykjanesbæ. HELSTU VERKEFNI: - Umsjón með Kaupmannsskóla Samkaupa - Ráðgjöf og stuðningur við verslanir í starfsmannamálum - Meðferð kjarasamninga - Ráðgjöf varðandi vinnurétt - Önnur tilfallandi verkefni
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR - Háskólamenntun sem nýtist í starfi - Starfsreynsla á sviði starfsmannamála kostur - Þekking á kjarasamningum og réttindum - Skipulagshæfni og samskiptahæfileikar - Sjálfstæði og frumkvæði
Samkaup hf. reka um 50 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverslunum til þægindaverslana. Starfsmenn félagsins eru um 1.000 talsins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Falur J. Harðarson starfsmannastjóri. Umsóknir berist fyrir 16. október á netfangið umsokn@samkaup.is
fimmtudagur 6. október 2016
SMÁAUGLÝSINGAR
Afþreying: Ástrós Skúladóttir
„MAMMA ÓLAFS ARNALDS MÁ VERA STOLT” Ástrós Skúladóttir er ungur og fráfluttur Keflvíkingur sem býr í Vesturbænum. Aðspurð segist hún ekki láta á sig fá að vera umkringd KR-veldinu og er ófeimin að fara í Keflavíkur peysunni út í ísbúð. Ástrós hefur starfað hjá Íslenskri erfðagreiningu síðastliðin 2 ár og stundar samhliða framhaldsnám í Líf- og læknavísindum, nánar tiltekið tölvulegri erfðafræði. Tímann aflögu nýtir hún í jóga, ferðalög, myndlist og handritaskrif. Bækur
Eins og ég les mikið af vísindagreinum bæði í vinnunni og heima þá skilgreinist það almennt ekki sem yndisauka lestur. Ég reyni ávallt að bendla mig við eina eða fleiri bækur, á hverjum tímapunkti, en vegna anna bíður engin bók á náttborðinu eftir mér, tilbúin til að draga mig úr raunveruleikanum og fylla hugann af ævintýrum, rómantík og almennri vitleysu. Í sumar las ég einstaklega vel skrifaða ævintýraseríu, The Kingkiller Chronicle eftir Patrick Rothfuss. Síðasta bókin er enn óútkomin en ég mæli sterklega með þeim við bókaorma af öllum tegundum. Nýverið las ég einnig Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason og Tiplað með Einstein eftir Joshua Foer. Báðar bækurnar eru hnyttnar og nokkuð áhugaverðar í ljósi líðandi tíma og málefna.
Tónlist
Í stað þess að telja upp lista af hljómsveitum á lengd við símaskrána, einblíni ég frekar á ólíka listamenn sem ég hlusta almennt mikið á. Alt-J eru töframenn sem galdra fram tóna og tilfinningar í takt við hvort annað. Ludovico Einaudi er annar töframaður sem semur lög sín á píanó, án texta, enda er hann óþarfur í slíkum tónverkum. Mitt uppá-
19
VÍKURFRÉTTIR
halds lag heitir Fly og kom það meðal annars fram í The Intouchebles. Ég kemst ekki hjá því að nefna Major Lazer en þeir hafa verið með mér á hlaupabrettinu frá árinu 2009. Síðan þá hefur mikið vatn og plast runnið til sjávar og eru vinsældir þeirra að sprengja alla helstu vinsældalista heims. Í stað þess að viðhalda fjölbreytileikanum þá verð ég að minnast á Ólaf Arnalds en þessi strákur er með ólíkindum hæfileikaríkur. Mamma hans má að vera stolt.
Sjónvarpsþættir
Það hefur átt sér stað ákveðin þróun (góð eða slæm) hjá mér í sjónvarpsglápi. Eitt sinn var setið í bíósal og horft á 3 klukkustunda bíómynd án þess að blikka auga. Sjónvarpsþættirnir tóku við af bíómyndunum og bíósalurinn breyttist í tölvuskjá og sófann heima. Í dag horfi ég aðallega á stutt myndbönd, í símanum, á ferð. Óháð því þá hefur lítið verið um efnilega sjónvarpsþætti undanfarið, að mínu mati, og ég sé fram á heldur daufa vetrardagskrá. Í sumar seríu-gleypti ég Netflix þættina Stranger Things, sem þarf líklega ekki að kynna fyrir landsmönnum, og einnig horfði ég nýlega á Black Mirror eftir Charlie Brooker en þeir eru virkilega vandaðir.
Óskar eftir að ráða duglega og ábyrga manneskju til að þrífa sameign í Njarðvík Verður að tala íslensku. Upplýsingar í síma 848-3359 eftir kl 18.
SJÓNVARP
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla
V Í K U R F R É T TA
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
NÝR ÞÁTTUR Í
www.bilarogpartar.is
HVERRI VIKU INNÁ WWW.VF.IS/VEFTV
sími 421 7979
Verið velkomin
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
ÖLDUNGARÁÐ SUÐURNESJA
AÐALFUNDUR Öldungarráðs Suðurnesja verður haldin 8. október á Nesvöllum og hefst hann kl. 13:00. Erindi flytur Halldór Jónsson forstjóri Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þjónusta við aldraða, staða og horfur Allir velkomnir Eyjólfur Eysteinsson formaður stjórnar Öldungarráðs Suðurnesja.
20
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 6. október 2016
Ástkær faðir, tengdafaðir og afi okkar,
Eiríkur Erlendsson,
Heiðarhvammi 8, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 2. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 11. október klukkan 13:00 Vilberg Eiríksson, Heiðrún Björk Sigmarsdóttir, Aron Ingi Vilbergsson, Arnar Gauti Vilbergsson, og aðrir aðstandendur.
Sigurbjörg Ósk Stefánsdóttir, Guðbjartur Sævarsson, Áslaug Eyrún Guðbjartsdóttir, Birkir Freyr Guðbjartsson,
ATVINNA Blaðberi óskast til að bera út Morgunblaðið í Keflavík. Upplýsingar gefur Guðbjörg í síma 860 9199.
ATVINNA Við leitum að bílstjóra, þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar á staðnum. Íslenska skilyrði.
Katla ætlar sér langt í lyftingum og stefnir að því að komast á Heimsleikana í Crossfit innan tveggja ára.
Setti óvænt Íslandsmet
í fyrstu lyftu á fyrsta mótinu ●●Hefur bætt Íslandsmet 30 sinnum síðan l Katla Björk ætlar sér langt í Crossfit Þegar Katla Björk Ketilsdóttir mætti á sitt fyrsta mót í ólympískum lyftingum í febrúar síðastliðnum hafði hún sett sér það markmið að lyfta rétt þannig að allar lyfturnar yrðu dæmdar gildar. Það tókst henni og gott betur því að strax í fyrstu lyftunum setti hún Íslandsmet í báðum greinum ólympískra lyftinga, jafnhendingu og snörun. Síðan þá er Katla búin að bæta metin þrjátíu sinnum, nú síðast á Haustmóti Lyftingasambands Íslands, 16. september síðastliðinn. Katla er aðeins 16 ára gömul og á Íslandsmet í greinunum tveimur bæði í flokki 17 ára og yngri og 20 ára og yngri í þyngdarflokknum -63 kg. Hún segir það skemmtilegasta við lyftingarnar að bæta árangurinn. „Maður er alltaf með markmið og það er varla hægt að lýsa tilfinningunni þegar maður nær þeim,“ segir hún. Saknar fimleikanna
Iðavöllum 11b, 230 Reykjanesbæ // s. 421 3555
NÝTT SÍMANÚMER VAKTÞJÓNUSTU UTAN DAGVINNUTÍMA HSS ER
1700
HSS hefur tekið í notkun vaktsímanúmerið 1700. Það er sameiginleg símaráðgjöf fyrir heilsugæslustöðvar og heilbrigðisstofnanir nota á landsvísu. Ef þú hringir í númerið fæst samband við hjúkrunarfræðing sem veitir þér ráðgjöf og leiðbeiningar. Ef tilefni er til, verður þér gefið samband við lækni. Athugið að 1700 er aðeins fyrir ráðgjöf utan dagvinnutíma. Hjúkrunarfræðingur í 1700 svarar ekki fyrirspurnum um tímabókanir eða opnunartíma HSS. Á milli kl. 8:00 og 16:00 virka daga skal hafa samband við móttöku HSS í síma 422-0500.
Katla æfði fimleika frá fjögurra ára aldri en er nú nýlega hætt til að einbeita sér að Crossfit og lyftingum. „Ég ætlaði mér aldrei í Crossfit en svo lét frænka mín mig vita að það væri að byrja unglinganámskeið í Crossfit og hvatti mig til að mæta. Ég hugsaði með mér að það væri sniðugt að mæta til að styrkja mig og verða betri í fimleikum,“ segir Katla. Það gekk eftir og fann hún mun á styrknum en tók svo þá erfiðu ákvörðun að hætta í fimleikunum. „Það var erfið og stór breyting að hætta í fimleikum því hafði æft svo lengi en ég ákvað að velja lyftingarnar því ég sé fyrir mér meiri möguleika á að skapa mér atvinnuíþróttaferil þar.“ Ólympískar lyftingar eru meðal æfinga Crossfit iðkenda og æfir Katla af kappi hjá Crossfit Suðurnes. Hún segir erfitt að segja til um hve margar æfingarnar í hverri viku eru en þær eru margar. Síðasta sumar æfði hún tvisvar sinnum á dag. Katla lauk 10. bekk úr Holtaskóla síðasta vor og var ein þeirra sex sem skipuðu sigurlið skólans í Skólahreysti. Núna stundar hún nám við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og því getur verið svolítið púsluspil að raða æfingum, skóla, heimanámi og öðru inn í dagskránna dag hvern.
Stefnir hátt
Næsta mót hjá Kötlu er Norðurlandamótið í Ólympískum lyftingum fyrir 17 ára og yngri sem fer fram hér á landi í lok október. Katla hefur líka keppt í Crossfit og á Crossfit Open, undankeppni heimsleikanna í febrúar á þessu ári, lenti hún í 2. sæti í flokki 14 til 15 ára í Evrópu og í 24. sæti í aldursflokknum í heiminum. Markmiðið hjá Kötlu er að komast á heimsleikana innan tveggja ára og skapa sér feril sem Crossfit íþróttamaður. Það verður því spennandi að fylgjast með árangri Kötlu næstu árin.
Katla að jafnhenda á æfingu. Íslandsmetið sem hún setti í greininni á dögunum er 82 kg. VF-mynd/dagnyhulda
Góður félagi og fyrirmyndar íþróttamaður ■■Ingi Gunnar Ólafsson er einn þjálfara Kötlu og segir hann bakgrunninn úr fimleikum nýtast henni vel í Crossfit og lyftingum. „Á mótum er Katla góður félagi og alltaf kurteis. Hún er fyrirmyndar íþróttamaður sem mætir vel á æfingar, er þrautseig og alltaf með hugann á réttum stað,“ segir hann. Ingi segir árangurinn á árinu einstakan, að setja Íslandsmet á hverju móti, þrátt fyrir að vera tiltölulega nýbyrjuð að æfa Ingi Gunnar Ólafsson lyftingar.
fimmtudagur 6. október 2016
21
VÍKURFRÉTTIR
Kolbrún Júlía á EM í hópfimleikum ■■Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman úr Fimleikadeild Keflavíkur var nýlega valin í landslið Íslands í hópfimleikum sem keppir á Evrópumótinu í Maribor í Slóveníu 12. til 15. október næstkomandi. Kolbrún segir það hafa komið skemmtilega á óvart að vera valinn í hópinn og eitthvað sem hún hafi aldrei búist við að myndi gerast. Tilkynnt var um hópinn í ágúst síðastliðnum. Kolbrún er 18 ára gömul og hefur æft fimleika í 11 ár. Lengst af æfði hún áhaldafimleika en skipti yfir í hópfimleika fyrir einu ári síðan. Hún mun keppa í blönduðu liði fullorðinna. Í liðinu eru sjö konur og átta karlar og keppa fimm af hvoru kyni í einu og hinir eru varamenn. Keppt er í dansi, á dýnu og trampólíni. Landslið Íslands í þessum flokki hefur ekki hampað Evróputitli. Sveindís Jane og Marc með Jóni Ben formanni knattspyrnudeildar og Benediktu Benediktsdóttur, formanni m.fl. Kvenna.
Sveindís og Marc best hjá Keflavík Sveindís Jane Jónsdóttir og Marc Mc Ausland voru valin bestu leikmenn meistaraflokka Keflavíkur í knattspyrnu en lokahóf knattspyrnudeildar var haldið síðasta laugardag. Í lokahófinu voru veittar viðurkenningar eftir leiktíðina. Tómas Óskarsson og Aníta Lind Daníelsdóttir voru valin efnilegust. Þá fengu Sigurbergur Elisson og Sveindís Jane gullskóinn fyrir flest skoruð mörk. Silfurskóinn hlutu Magnús Þórir Matthíasson og Amber Pennybaker. Þá var Benedikt Jónsson valinn besti leikmaður 2. flokks karla. Keflvíkingar hafa mörg undanfarin ára veitt fréttagyðjuna. Að þessu sinni fékk enginn annar en Jón Örvar Arason styttuna en hann hefur verið mjög duglegur með myndavélina á leikjum og atburðum félagsins.
Ferðin til Slóveníu kostar um 400.000 krónur fyrir hvern keppanda og stendur núna yfir söfnun á vegum Fimleikasambands Íslands undir heitinu Vertu mEMm. Sambandið skorar á fyrirtæki að styrkja landsliðsfólkið. Sjálfgefin upphæð er 25.000 krónur en hægt er að hækka hana eða lækka. Þau fyrirtæki sem styrkja eru svo beðin um að skora á tvö önnur fyrirtæki að gera það sama. Einnig er hægt að
Kolbrún Júlía var nýlega valin í landslið Íslands sem keppir á Evrópumótinu í hópfimleikum sem fer fram síðar í þessum mánuði í Maribor í Slóveníu.
styrkja um 1500 krónur, 3000 krónur eða 5000 krónur með símtali. Nánar má lesa um söfnunina á vef Fimleikasambands Íslands, www.fimleikasamband.is.
Þorvaldur lætur af störfum
Markahæstu leikmennirnir fengu silfur og gullskó að venju. Sveindís og Sigurbergur með gullið.
■■Þorvaldur Örlygsson, sem tók við þjálfun meistaraflokks karla haustið 2015, lætur nú af störfum sem þjálfari Keflvíkinga og mun að öllum líkindum hefja störf hjá Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ) í fullu starfi nú í haust. Þorvaldur hefur samhliða þjálfun meistaraflokks karla hjá knattspyrnudeildinni starfað í hlutastarfi hjá KSÍ sem þjálfari U-19 ára landsliðs karla. KSÍ hyggst nú gera þetta að 100% starfi sem mun hafa þau áhrif að Þorvaldur getur ekki þjálfað félagslið samhliða. Knattspyrnudeild Keflavíkur þakkar Þorvaldi fyrir vel unnin störf á liðnu ári og ánægjulegt samstarf og óskar honum velfarnaðar í starfi hjá KSÍ, segir í sameiginlegri fréttatilkynningu. Keflavík endaði í 3. sæti í Inkasso-deildinni í sumar. All nokkrar væringar voru um áframhaldandi störf Þorvaldar hjá félaginu og ekki allir á eitt sáttir með hans störf í sumar.
22
VÍKURFRÉTTIR
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa
Birgis Guðnasonar,
málarameistara, Keflavík, Blessuð sé minning hans. Guð veri með ykkur. Harpa Þorvaldsdóttir, Björk Birgisdóttir, Guðni Vignir Sveinsson, Sóley Birgisdóttir, Ingólfur H. Matthíasson, Börkur Birgisson, Hafdís Hafsteinsdóttir, Ösp Birgisdóttir, Rúnar Ingi Hannah, Burkni Birgisson, Rakel Lind Hauksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sveinbjörn Egilsson
Aragerði 15, Vogum, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, laugardaginn 1. október. Útför hans fer fram frá Kálfatjarnarkirkju föstudaginn 7. október kl. 15:00. Hilmar Egill Sveinbjörnsson, Vignir Sveinbjörnsson, Eva Sveinbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.
Áshildur Linnet, Guðný Helga Kristjánsdóttir Torfi Magnússon,
fimmtudagur 6. október 2016
Halldór og Bjarni Íslandsmeistarar í brasilískri glímu Um helgina fór fram Íslandsmeistaramót barna og unglinga í brasilískri glímu eða Brazilian jiu jitsu. Njarðvíkingar mættu með ellefu keppendur til leiks og unnu þau Stefán Elías, Jana Lind, Daníel Dagur og Ingólfur Rögnvaldsson öll til bronsverðlauna eftir margar erfiðar viðureignir. Ægir Már Baldvinsson keppti í elsta flokki undir 65 kg. Hann sigraði fyrsta bardagann á hengingu sem og undanúrslitabardagann. Í úrslitabardaganum var hann yfir allan tíman vegna öflugra sókna. Þegar 30 sekúndur voru eftir af viðureigninni skoraði andstæðingur hans stig og varð Ægir því annar í sínum flokki. Í -79kg flokki sigraði Bjarni Darri Sigfússon örugglega. Hann stjórnaði öllum sínum viðureignum hvort sem það var standandi eða í gólfinu og sigraði alla sína bardaga á uppgjafartökum. Í flokki unglinga sem eru þyngri en 80 kg sigraði svo ungstirnið Halldór Matthías Ingvarsson. Hann stimplaði sig inn í BJJ samfélagið á þessu móti með því að sigra einn öflugasta BJJ glímumann landsins í fyrstu viðureign
Sif er flugumferðarstjóri í flugturninum á Keflavíkurflugvelli. Í daglegu starfi veitir hún tugum flugvéla heimildir til flugtaks- og lendingar og starf hennar tryggir að flugumferð gangi hratt og örugglega fyrir sig á flugvellinum. Þannig er Sif hluti af góðu ferðalagi fjölda farþega á hverjum degi.
með armlás. Í úrslitaglímunni barðist hann við glímumann sem einnig er brúnbeltingur í júdó. Halldór stjórnaði þeirri glímu sem byrjaði með fallegu kasti og endaði með uppgjafartaki.
Bjarni Darri Sigfússon keppti svo í opnum flokki sem er erfiðasti flokkurinn því þar er keppt óháð þyngd. Bjarni hélt uppteknum hætti og sigraði flokkinn með yfirburðum. Annar Íslandsmeistaratitill Halldórs og fjórði Íslandsmeistaratitill Bjarna á þessu ári.
fimmtudagur 6. október 2016
23
VÍKURFRÉTTIR
Í upphafi skal endirinn skoða Þegar unnið var að rannsóknum á há hitasvæðum Reykjanesskagans fyrir áratugum síðan kom ég þar við sögu. Gekk meðal annars um hornpunkta í ótrúlega þéttu mælineti á sjálfu Reykjanesinu, háhitasvæðinu þar. Ég átti líka þátt í að mæla og greina á milli ónothæfs jarðhitasvæðis austan Grindavíkurvegar, þar sem er hið eiginlega Svartsengi, og svæðisins sem virkjað var vestan vegar, frammi fyrir hlíðum Þorbjarnarfells, og er oftast kennt við Svartsengi. Þá grunaði mig ekki að ég skipaði lista VG í landshlut anum í þingkosningum á næstu öld. En svo fór og nú stendur upp á mig að gera almenningi og umhverfinu gagn. Náttúruauðlindir nýtum við með skynsemi og sjálfbærni að leiðar ljósi. Þær helstu eru í raun ekki mjög margar hér á landi: Jarðvarmi, vatns afl, jarðvegur og gróður, kalt neyslu vatn, lífríki hafsins og fáein jarðefni, aðallega byggingaefni. Og nú síðustu ár til viðbótar og í meira mæli en nokkurn grunaði: Náttúrufyrirbæri og landslag í sem fjölbreyttastri mynd.
Ari Trausti Guðmundsson í 1. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi skrifar.
Fljúga milli Keflavíkur og Akureyrar
Þjónusta við erlenda ferðamenn er orðin að eins konar stóriðju en við náum ekki að fylgja þróuninni eftir og bregðast við þannig að fjármagn og uppbygging tryggi sjálfbæra og við ráðanlega starfsemi í greininni. Ég gæti romsað upp verkefnum og viðrað hugmyndir um stjórnun ferðaálags
rétt eins og veiðiálags í sjávarútvegi en læt ógert. Fyrsta kastið verð ég að hlusta á ykkur Suðurnesjabúa: Hvað brennur helst á fólki; fyrir hverju á hreyfing með félagslegar lausnir og umhverfisvæna stefnu að standa í vesturhluta kjördæmisins?
Flugfélag Íslands hefur beint innan landsf lug milli Keflavíkur og Akur eyrar á næsta ári í tengslum við milli landaf lug í Keflav ík. Flogið verður allan ársins hring á milli Keflavíkur og Akureyrar, en auk þess hagræðis sem þetta hefur í för með sér fyrir íbúa á Norðurlandi sem vilja nýta sér millilandaf lug, er gert ráð fyrir að
þetta verði til þess að fjölga enn frek ar ferðamönnum á landsbyggðinni. Fyrsta flug milli Keflavíkur og Akur eyrar verður þann 24. febrúar 2017, segir í tilkynningu frá Flugfélagi Ís lands.
16-1620 — HVÍTA HÚSIÐ / SÍA
Flogið verður sex sinnum í viku milli Akureyrar og Keflavíkur yfir vetrar
tímann og þrisvar sinnum í viku yfir sumartímann. Í tilkynningunni kem ur fram að á þessu stigi verði þetta flug eingöngu í boði fyrir farþega sem eru á leið í eða úr millilandaflugi í Kefla vík og geta farþegar sem nýta sér þessa þjónustu ferðast alla leið frá Akureyri til endanlegs áfangastaðar í Evrópu eða Norður Ameríku.
Einar er arkitekt sem er á leið til Frakklands í vinnuferð. Hann er vanur því að fá sér morgunverð á Keflavíkurflugvelli og treystir á að allt gangi hratt og örugglega fyrir sig á flugvellinum.
VIÐ ERUM HLUTI AF GÓÐU FERÐALAGI Hjá Isavia starfar samhentur hópur starfsmanna. Markmið okkar er að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra 30 milljóna farþega sem fara um flugvelli og flugstjórnarsvæði okkar árlega. Okkar hlutverk er að tryggja öryggi þeirra allra og gera för þeirra sem ánægjulegasta. Við erum að vaxa og þurfum að fjölga í liðinu okkar til að bregðast við sífelldri fjölgun farþega. Stefna okkar er að bjóða upp á gott og fjölskylduvænt starfsumhverfi, öfluga fræðslu og þjálfun og við leggjum áherslu á jákvæðan starfsanda innan fyrirtækisins. Kynntu þér störfin sem standa til boða hjá Isavia og vertu með okkur í því að vera hluti af góðu ferðalagi.
isavia.is/atvinna facebook.com/isaviastorf
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001
Mundi STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
ATVINNA LOKAORÐ Ragnheiðar Elínar
Tvöfaldan klór í vatni, engan ís takk!
instagram.com/vikurfrettir
ÓSKUM AÐ RÁÐA ÖRYGGISVERÐI
Vendipunktur Vendipunktar eru vanmetnir. Hvort sem þeir eru planaðir eða ekki. Ég stend á tímamótum, það hefur orðið vendipunktur í mínu lífi. Ég kannski bjóst ekki við því, bjó mig kannski ekki undir það...en það breytir ekki því að tímamótin eru að verða staðreynd. Breytingar geta verið fyrirkvíðanlegar, stundum ógnvekjandi og eitthvað sem menn reyna að forðast í lengstu lög. Það er mannlegt - við vitum hvað við höfum og það sem við þekkjum er yfirleitt öruggara en ókannaðar slóðir. Ég hef starfað í stjórnmálum í tæpa tvo áratugi, lifað og hrærst í því dásamlega umhverfi sem stjórnmálin eru með öllum þeim kostum og göllum sem þeim fylgja. Sannarlega í heildina miklu fleiri kostir - en þó nokkrir gallar. Ég hef haft áhrif á samfélagið sem ég bý í en stundum á kostnað þeirra sem ég bý með. Ég hef verið beinn þátttakandi í stærstu viðburðum Íslandssögunnar á undanförnum áratugum, en stundum þannig að ég hef ekki haft tækifæri til að vera þátttakandi í mikilvægum stórviðburðum hjá mínum allra nánustu. Þannig að í vendipunktum felast tækifæri. Þar eru ýmsar áskoranir, óvissa og áhætta um það sem koma skal. En vendipunktum fylgir líka frelsi. Frelsi til að forgangsraða. Frelsi til að horfa til framtíðar með bjartsýni og krafti. Frelsi til að hafa reynsluna að leiðarljósi, og nota sama frelsið til að horfa til fortíðar með þakklæti og gleði fyrir það sem var. Og vitið þið hvað - vendipunktar eru vanmetnir. Þeir hrista upp í manni og ef maður tekur þeim fagnandi verða þeir bara til góðs. Og það er það sem ég hef ákveðið að gera á þeim tímamótum sem ég stend frammi fyrir. Nú er autt blað fyrir framan mig og mína, blað sem ég ætla mér að skrifa með mínum nánustu. Kærar þakkir fyrir mig - þessi vendipunktur skal nýttur til hins ítrasta. Skoðanir pistlahöfunda eru þeirra eigin og endurspegla ekki endilega skoðanir ritstjórnar Víkurfrétta.
Frisbee golf og fótbolta golf í Voga? ■■Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga tók frisbee golf til umfjöllunar á síðasta fundi sínum en einn nefndarmaður óskaði eftir að fá að taka upp umræðuna. Slíkir vellir hafa notið aukinna vinsælda og finnast æ víðar. Nefndin tók jákvætt í erindið og telur æskilegt að skoða jafnframt möguleika á að koma upp fótboltagolfvelli samhliða. Frístunda- og menningarfulltrúa er falið að afla frekari upplýsinga og vinna málið áfram. Afgreiðsla nefndarinnar hefur jafnframt verið afgreidd frá bæjarstjórn Voga með öllum greiddum atkvæðum.
GÆSLUDEILD SECURITAS Á REYKJANESI
sinnir fjölbreyttum verkefnum, m.a. staðbundinni gæslu, verðmætaflutningum, farandgæslu, útkallsþjónustu og sérverkefnum. Við erum á vaktinni allan sólarhringinn og við leitum að fólki sem getur og vill vinna dag og nótt m.a. í gagnaveri Verne á Ásbrú.
HÆFNISKRÖFUR: Umsækjendur skulu hafa hreint sakarvottorð. Að standast bakgrunnsskoðun í FLE er forsenda ráðningar. · Hreint sakavottorð · Rík þjónustulund · Hæfni í mannlegum samskiptum · Stundvísi og snyrtimennska · Sjálfstæð vinnubrögð og metnaður að gera vel · 20 ára aldurstakmark · Tölvu- og enskukunnátta kostur · Bílpróf nauðsynlegt fyrir öryggisverði
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Securitas Reykjanesi, sími 5807200, netfang reykjanes@securitas.is. Umsóknir berist í gegnum heimasíðu okkar www.securitas.rada.is, fyrir 18. október 2016.
SECURITAS REYKJANESI IÐAVELLIR 13, 230 REYKJANESBÆ, S. 580 7200