Skip to main content

4 tbl 2017

Page 1

• fimmtudagurinn 26. janúar 2017 • 4. tölublað • 38. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Kanna viðhorf íbúa til sameiningar ■■Íbúum í Sandgerði og Garði stendur nú til boða að taka þátt könnun um viðhorf til sameiningar sveitarfélaganna en þessa dagana er unnið að greiningu á kostum og göllum hennar. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki í maí og að í framhaldi af því verði tekin afstaða til þess hvort íbúar muni kjósa um tillögu um sameiningu sveitarfélaganna. Á vefsíðum sveitarfélaganna tveggja kemur fram að mikilvægt sé að fá fram sjónarmið íbúa til sameiningar og ábendingar um ýmislegt sem málið varðar og íbúum finnst skipta máli. Íbúar eru hvattir til að taka þátt í könnuninni og að koma sínum sjónarmiðum og ábendingum á framfæri. Ráðgjafarfyrirtækið KPMG heldur utan um verkefnið og er ekki á neinn hátt mögulegt að rekja þátttöku í könnuninni til þeirra einstaklinga sem taka þátt í henni. Í febrúar verður boðað til sérstakra íbúafunda og eru íbúar hvattir til að mæta. Könnunin stendur yfir til 1. febrúar.

Munu lagfæra Grindavíkurveg sem fyrst

FÍTON / SÍA

■■Samgönguráðherra hefur falið Vegagerðinni að lagfæra hættulegan kafla á Grindavíkurvegi þar sem alvarleg slys hafa orðið. Mislæg gatnamót verða líka gerð á varasömum kafla á Reykjanesbraut við Krýsuvíkurveg. RÚV greinir frá. Framlög til vegamála voru aukin um fjóra og hálfan milljarð króna í nýjum fjárlögum. Það stendur m.a. til að gera betrumbætur á vegarkafla á Grindavíkurvegi þar sem orðið hafa mjög alvarleg slys. Nú síðast þann 12. janúar þegar átján ára stúlka beið bana og kínversk kona sem var í hinum bílnum slasaðist alvarlega. „Við óskuðum eftir því við Vegagerðina að sá kafli yrði skoðaður alveg sérstaklega og við munum fá tillögur þar að lútandi, hvernig hægt verður að draga þar úr slysatíðni. Það hafa orðið alvarleg slys á mjög takmörkuðum kafla á Grindavíkurvegi og þessi dæmi höfum við annars staðar frá og það er í einmitt í þessa kafla sem við viljum forgangsraða því fjármagni sem við höfum til ráðstöfunar,“ segir Jón Gunnarsson samgönguráðherra í samtali við RÚV.

einföld reiknivél á ebox.is

Súrt og salt á þorrablóti í Garði

■■Þorrablót Suðurnesjamanna var haldið í Garði um sl. helgi. Þetta er í áttunda sinn sem Björgunarsveitin Ægir og Knattspyrnufélagið Víðir sameinast um þessa sælkeraveislu en Axel Jónsson og hans fólk hjá Skólamat hafa séð um þorramatinn þar sem súrmetið og saltkjötið er í hávegum haft í bland við aðrar þjóðlegar kræsingar. Hér má sjá mynd frá einu hlaðborðinu. Fleiri myndir eru í blaðinu í dag og einnig á vef Víkurfrétta, vf.is. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson

ÍBÚUM Í REYKJANESBÆ FJÖLGAÐI UM 1100 ●●49 lóðum úthlutað á síðasta ári l áfram unnið að eflingu miðbæjar

Góður árangur hefur náðst við að rétta fjárhag bæjarfélagsins af. Íbúafjöldi jókst um 1100 á síðasta ári. 49 lóðum var úthlutað í Reykjanesbæ á síðasta ári. Flestar voru undir atvinnuhúsnæði við Flugvelli eða 19 talsins. 17 einbýlishúsalóðum var úthlutað, 8 raðhúsalóðum og 5 parhúsalóðum. Viðlíkum fjölda lóða hefur ekki verið úthlutað síðan fyrir hrun. Þetta kom fram á kynningarfundi um fjármál og framkvæmdir í Reykjanesbæ sem Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, hélt í Hljómahöll í síðustu viku. Undanfarin ár hafa einkennst af hagræðingu í rekstri Reykjanesbæjar með gerð Sóknarinnar árið 2014. Þar er meðal annars kveðið á um aðhaldsaðgerðir til að auka framlegð, stöðvun á streymi fjármagns úr A-hluta (bæjarsjóður) yfir í B-hluta (tengdar stofnanir), sölu fasteigna og endurskipulagningu skulda og frestun fjárfestinga. Samkomulag var undirritað

þann 22. desember síðastliðinn við innanríkisráðherra og er markmiðið með því að stuðla að sjálfbærni í rekstri Reykjanesbæjar á þessu ári í samræmi við 1. mgr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga. Þá gerir samkomulagið ráð fyrir áframhaldandi markvissri vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu og hagræðingu í rekstri bæjarins svo að fjárhagslegum viðmiðum sveitarstjórnarlaga verði náð. Þær eru að heildarskuldir og skuldbindingar A- og B-hluta séu ekki hærri en nemur 150% af reglulegum tekjum. Á fundinum fór Kjartan yfir þann árangur sem hefur náðst og sagði allt útlit fyrir að það tækist að koma skuldum neðan viðmiðs árið 2022, líkt og samkomulagið kveður á um, ef samningar nást við stærstu kröfuhafa. Af helstu framkvæmdum ársins 2016 má nefna endurbætur á Gömlu búð og Fichershúsi, uppbyggingu tjaldsvæðis,

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

umhverfisverkefni í Ásahverfi, hringtorg við Stekk, ýmis verkefni tengd skólum og leikskólum, LED ljósa væðingu í byggingum og götuljósum og fegrun miðbæjar svo nokkuð sé nefnt. Áfram verður unnið að uppbyggingu Gömlu búðar og Fischershúss. Frekari uppbygging verður á framtíðar úti-

• • •

vistarsvæðinu ofan byggðar í YtriNjarðvík, svokölluðum Njarðvíkurskógum, unnið að aðgengismálum og áframhaldandi eflingu miðbæjar, ásamt búsetuúrræðum fyrir fatlaða og félagslegt húsnæði, svo nokkrar fyrirhugaðar framkvæmdir ársins 2017 séu nefndar.

Sala bíla Sala varahluta Verkstæðisþjónusta

590 5090

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is


2

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 26. janúar 2017

Dráttarbátur og hafnsögubátar koma flutningaskipinu Cemluna til hafnar í Helguvík. VF-myndir: Hilmar Bragi

Vélarvana og með fullfermi af sementi til Helguvíkur Vinnueftirlitið óskar eftir að ráða eftirlitsmann til starfa við vélaog tækjaeftirlit á Suðurnesjum HELSTU VERKEFNI ERU: • Vinnuvéla- og tækjaeftirlit, sbr. ákvæði laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum • Fræðsla á námskeiðum MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR: • Tæknimenntun, t.d. vélfræði- eða iðnmenntun (vélvirkjun/bifvélavirkjun) • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi sem þessu, s.s vinna við stjórn og/eða viðgerðir vinnuvéla. • Skipulagshæfni, sjálfstæði, nákvæmni og frumkvæði í starfi • Sveigjanleiki og mikil hæfni í mannlegum samskiptum • Góð íslenskukunnátta og þjálfun í framsetningu ritaðs máls • Kunnátta í ensku og/eða Norðurlandamálum er æskileg • Tölvufærni • Reynsla af fræðslu- og kynningarstarfi kostur Um er að ræða 100 % starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfsþjálfun fer fram við upphaf starfs. Laun eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið. Vinsamlegast sækið um á vef Starfatorgs. Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar nk. Nánari upplýsingar um starfið fást hjá Magnúsi Guðmundssyni hjá vinnuvéladeild á netfangið mg@ver.is eða í síma 550 4600. Vinnueftirlitið er miðstöð vinnuverndarstarfs í landinu og byggir starf sitt á samþættingu eftirlits, fræðslu og rannsókna. Vinnueftirlitið starfar samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu www.vinnueftirlit.is.

Frumkvæði - Forvarnir - Fagmennska

Komið var með vélarvana flutninga­ skip til Helguvíkurhafnar sl. sunnu­ dag. Flutningaskipið Cemluna varð vélarvana um 100 sjómílur suðaustur af Vestmannaeyjum í síðustu viku. Dráttar­bát­ur­inn Tog­ar­inn sem gerður er út af Skipaþjón­u stu Íslands var send­ur á vett­vang og var taug komið á milli skipanna en veður var afleitt og þungur sjór. Ceml­una er skráð á Kýp­ ur en var á sigl­ingu frá Ála­borg í Dan­ mörku til Helgu­vík­ur með sement.

Þegar dráttarbáturinn Togarinn kom með skipið á ytri höfnina við Helgu­ vík komu hafnsögubátarnir Auðunn og Jötunn til aðstoðar við að koma flutningaskipinu að bryggju. Þegar var hafist handa við að landa úr skip­ inu sementsfarmi og að gera við vél skipsins. Sementsskip eru orðnir mjög tíðir gestir í Helguvík, enda höfnin þar langstærsta innflutningshöfn á sem­ enti til Íslands.

Í B ÍLNUM

DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.

SUÐURNES - REYK JAVÍK SÍMI: 845 0900

Lífshlaupið - landskeppni í hreyf­ ingu hefst 1. febrúar næstkomandi. Í Reykjanesbæ verður Lífshlaupinu formlega hleypt af stokkunum með athöfn í Íþróttahúsinu við Sunnu­ braut þann 1. febrúar klukkan 8:30. Í Reykjanesbæ er núna í gangi verkefnið Heilsueflandi samfélag og verður Lífs­ hlaupið í nánu samstarfi við það og við Skólahreysti. Holtaskóli, sigur­ vegari Skólahreysti árið 2016, mun taka virkan þátt í athöfninni. Að sögn Jóhanns Friðriks Friðriks­ sonar, verkefnastjóra samráðshóps um heilsueflandi samfélag, er mark­ miðið að stuðla að bættri heilsu allra íbúa Reykjanesbæjar, þar sem áhersla er lögð á að bæta félagslegt og mann­ gert umhverfi og draga úr tíðni lífsstíl­

stengdra sjúkdóma með margvíslegu heilsueflingarstarfi. Lífshlaup ÍSÍ á tíu ára afmæli um þessar mundir en með verkefninu eru landsmenn hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er, það er í frítíma, vinnu, í skóla og við val á virkum ferðamáta. „Við viljum hvetja allar stofnanir, skóla og einstaklinga í Reykjanesbæ til þess að skrá sig í Lífshlaup ÍSÍ, en skráningin fer fram á heimasíðu verkefnisins, lifshlaupid. is,“ segir Jóhann Friðrik. Hann bendir einnig á að koma megi ábendingum á framfæri varðandi heilsueflingu í bæjarfélaginu á heimasíðu heilsuefl­ andi samfélags í Reykjanesbæ, heilsu­ eflandisamfelag.is.

Minningarsjóður Gísla Torfasonar styrkir bókakaup nemenda

ÞORRABLÓT

Árlegt Þorrablót félags eldriborgara verður haldið á Nesvöllum föstudaginn 3. febrúar, kl. 19:00. Húsið opnar kl. 18:30. Miðar verða seldir á Nesvöllum miðvikudaginn 1. febrúar frá kl. 16:30 til kl. 18:00.

Miðaverð kr. 5000,-

Vegna plássleysis eru aðeins 140 miðar í boði. Stjórnin

FINNDU OKKUR Á FACEBOOK

■■Í byrjun febrúar verði settur upp nýr 4G sendir Símans í aðstöðu Mílu á Hafnhól við Reykjanesbraut. „Þetta eru góðar fréttir, ekki síst fyrir íbúa Vatnsleysustrandar, sem fram til þessa hafa þurft að reiða sig á 3G tengingar, sem eru mun hægvirkari en 4G. Í september sl. var nýr 4G sendir einnig tekinn í notkun á Vogastapa, þannig að nú glittir í að allir íbúar Sveitarfélagsins Voga njóti góðs af 4G sambandi,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, í vikulegu frétta­ bréfi sínu. Uppsetning þessara senda er ekki síst jákvæð fyrir þá sem ferðast um Reykjanesbrautina, því þeir munu framvegis ná að tengjast 4G þegar ferðast er eftir brautinni. Ekki síst ánægjulegt fyrir þá fjölmörgu sem ferðast með strætó, en í vögnunum er aðgangur að netsambandi, segir Ásgeir jafnframt.

Lífshlaupið að hefjast Flugprófanir yfir Hvassa-

■■Stjórn minningarsjóðs Gísla Torfasonar hefur ákveðið að veita skuli úr sjóðnum í janúar ár hvert. Sjóðurinn var stofnaður með það fyrir augum að styrkja nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem eiga í ýmis konar erfiðleikum og þar með fylgja eftir því góða starfi sem Gísli vann í skólanum. Í ár er ætlunin að styrkja nemendur sem eru fjárhagslega illa staddir til kaupa á námsbókum. Nánari upplýsingar um styrkina og umsóknarferlið má nálgast á vef Fjöl­ brautaskóla Suðurnesja. Umsóknarfrestur er til 20. janúar næstkomandi.

ALLTAF PLÁSS

Bæta 4G samband í Vogum og á Vatnsleysuströnd

hrauni

■■Samgöngustofa upplýsti Sveitarfélagið Voga á dögunum um að beiðni hefði borist frá Icelandair um flugprófanir í Hvassahrauni. Tilgangurinn er að meta veðuraðstæður í aðflugi að ímynduðum flugvelli í Hvassahrauni. Hannaðir hafa verið flugferlar að þremur flugbrautum, sem Icelandair hyggst fljúga aðflug að. Í þessum flugprófunum felst að flogið verður allt niður í 500 feta hæð sem samsvarar um 152 metra hæð yfir jörðu. Samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu verður flugið framkvæmt í fullu samræmi við gildandi flugreglur en ljóst að þotum Icelandair verður flogið í lægri flughæðum en vant er á þessu svæði. Sem kunnugt er var niðurstaða hinnar svokölluðu Rögnunefndar á sínum tíma sú að flugvöllur í Hvassahrauni væri vænlegasti kosturinn fyrir nýjan innanlandsflugvöll í jaðri höfuð­ borgarsvæðisins, kæmi til þess að Reykjavíkurflugvöllur yrði aflagður í núverandi mynd.

Enn eitt metárið hjá Vogastrætó ■■Farþegar sem nýttu sér Vogastrætó árið 2016 hafa aldrei verið jafnmargir frá upphafi. Verkefnið hófst árið 2011 sem tilraunaverkefni, en árið 2012 var fyrsta heila starfsárið. Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, greinir frá þessu í vikulegu fréttabréfi sínu. Ferðirnar eru þannig skipulagðar að þær eru tengdar við tímatöflu leiðar 55 hjá Strætó, sem ekur milli höfuð­ borgarsvæðisins og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Verkefnið fór frekar hægt af stað, en hefur stöðugt vaxið fiskur um hrygg. Á hverju ári fjölgar þeim sem nýta sér almenningssamgöngur, enda hefur þjónustan stórbatnað eftir að leiðar­ kerfið á Suðurnesjum var samtengt við leiðakerfi Strætó bs og unnt að ferðast áfram innan höfuðborgar­ svæðisins á sama fargjaldi.


16 - 3 7 5 3 - H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A

Arnar starfar við flugvernd á Keflavíkurflugvelli. Hann er hluti af góðu ferðalagi.

V I LT Þ Ú V E R Ð A H L U T I A F GÓÐU FERÐALAGI Í SUMAR? Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið.

Fjölbreytt sumarstörf á Keflavíkurflugvelli. Við leitum að einstaklega þjónustulunduðum, glaðlyndum, snyrtilegum og reyklausum einstaklingum sem hafa góða samskiptahæfileika, lipra og þægilega framkomu, eru sveigjanlegir og geta unnið undir álagi. Óskað er eftir starfsfólki bæði í hluta- og heilsdagsstörf en um er að ræða vaktavinnu. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í maí og unnið út ágúst. FARÞEGAAKSTUR

FLUGVERND

B Í L A S TÆ ÐA ÞJ Ó N U S TA

FA R Þ E G A ÞJ Ó N U S TA

Helsta verkefni er rútuakstur farþega á flughlaði Keflavíkurflugvallar.

Helstu verkefni eru vopna- og öryggisleit, eftirlit í flugstöð og á flughlöðum á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir starfsfólki í hluta- og heilsdagsstörf .

Helstu verkefni eru umsjón með farangurskerrum í og við flugstöðina. Almenn þjónusta og aðstoð við viðskiptavini á bílastæðum flugstöðvarinnar.

Helstu verkefni eru þjónusta við farþega, umsjón og eftirlit með þjónustuborðum. Eftirlit með búnaði sem farþegar nota, flæðisstýring farþega og önnur tilfallandi verkefni sem snúa að aðstoð við farþega.

Hæfniskröfur: • Próf á hópferðabifreiðar er skilyrði • Fullnaðarskírteini fyrir B réttinda flokk í ökuskírteini

Hæfniskröfur: • 18 ára aldurstakmark • Góð ensku- og íslenskukunnátta • Rétt litaskynjun • Lágmark tveggja ára framhaldsnám eða sambærilegt • Umsækjendur þurfa að sækja undirbúningsnámskeið og standast próf í lok námskeiðs

Hæfniskröfur: • 18 ára aldurstakmark • Góð ensku- og íslenskukunnátta • Sjálfstæð vinnubrögð

Hæfniskröfur: • 18 ára aldurstakmark • Sjálfstæð vinnubrögð og lipurð í samskiptum • Góð ensku- og íslenskukunnátta, þriðja tungumál er kostur

Við bjóðum upp á fríar rútuferðir til og frá höfuðborgarsvæðinu fyrir starfsmenn sem þurfa á því að halda.

Isavia hlaut gullmerki PwC fyrir launajafnrétti í jafnlaunaúttekt PwC 2015 og 2016. Við erum stolt af þeirri niðurstöðu og er hún í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað.

S TA R F S S T Ö Ð : K E F L AV Í K U R F L U G V Ö L L U R

UMSÓKNAR FR ESTUR : 5. FEBRÚAR 201 7

UMSÓKNIR: I S AV I A . I S/AT V I N N A


PRÓTEINBRAUÐ Inniheldur 25% prótein

6 Brauð

Aðeins 12g kolvetni pr. 100g

í pakka

na Lágkolvet

Brauð

459

219 kr. 6 stk.

398

kr. 420 g

Polarbrauð 250 g, 6 stk. í pakka

kr. 400 g

Gæða Lágkolvetnabrauð 420 g

Bónus Próteinbrauð 400 g

SAMA VERd

98

298

um land allt

kr. pk.

kr. 200 g

Sómi Hummus 200 g

Bónus Flatkökur 170 g, 5 stk. í pakka

100%

Safi

1L

2L

Engin

Kolvetni

169

2.495 kr. stk.

kr. 591 ml

198

198

Floridana Heilsusafi 1 lítri

Egils Kristall 2 lítrar

kr. 2 l

kr. 1 l

Powerade Zero 591 ml, 3 teg.

Amino Energy Fæðubótarefni 270 g, 7 tegundir

1

KAUPAUKI

v

100kr

2 stk. eldhúsrúllur

5-9 kg, 7-11 kg, 10-14 kg, 13-20 kg, 16-26 kg,

+

62 stk. 54 stk. 50 stk. 46 stk. 42 stk.

1.398 kr. pk.

998 kr. pk.

Libero Bleiur Margar stærðir

Nicky Salernispappír 16 rúllur með kaupauka Verð gildir til og með 29. janúar eða meðan birgðir endast

verðlækkun

1.298 kr. pk. Ariel Þvottaefni 40 þvottar Verð áður 1.398 kr.


Íslenskt grísakjöt

AF NÝSLÁTRUÐU

ð

a

0kr

n

498

1.198 kr. 900 g

900g

ES Kjúklingabringur Frosnar, 900 g

kr. kg

1.298 kr. kg

Danpo Kjúklingur Danskur, heill, frosinn

Bónus Grísakótilettur Með beini, ferskar

GOTT VERÐ Í BÓNUS

25%

25%

verðlækkun

NÝTT Í BÓNUS Vegan

verðlækkun

298 kr. 630 g

298 kr. 630 g

998 kr. 620 g

398

Kjarnafæði Kjötfars Frosið, 630 g Verð áður 398 kr.

Kjarnafæði Ömmufars Saltkjötfars, frosið, 630 g Verð áður 398 kr.

Kjarnafæði Nautahakk 100% nautgripakjöt Frosið, 630 g

Linda McCartney Veganvörur Borgarar, 2 stk., 227 g Pylsur, 6 stk., 300 g

Vegan

kr. pk.

í lausu

17% verðlækkun

298 kr. 360 g

259

Kjarnafæði Pólskar Pylsur Ferskar, 360 g Verð áður 359 kr.

Almond Dream Möndlumjólk Oat Dream Haframjólk Með kalki, 1 lítri

kr. pk.

198 kr. kg

198

Appelsínur Í lausu, Spánn

Epli, gul og græn Í lausu, Frakkland

kr. kg

Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00


6

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 26. janúar 2017

áð Menningarr æjar Reykjanesb Auglýst eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð Reykjanesbæjar 1. Þjónustusamningar við menningarhópa Ákveðnu fjármagni verður varið í þjónustusamninga við menningarhópa í bæjarfélaginu árið 2017 eins og verið hefur. Um ýmis konar þjónustu af hálfu menningarhópanna getur verið að ræða, s.s. þátttöku í viðburðum, námskeiðahald o.fl. í þeim dúr gegn ákveðinni greiðslu. 2. Verkefnastyrkir til menningartengdra verkefna Ákveðnu fjármagni verður varið í verkefnastyrki á árinu 2017 sem miða að því að hægt verði að fá fjármagn til einstakra menningarverkefna sem standa munu bæjarbúum til boða á árinu. Eyðublöð er að finna á vef Reykjanesbæjar, http://www.reykjanesbaer.is/is/mannlif/menning/menningarstyrkir. Umsóknum skal skilað á netfangið menningarfulltrui@reykjanesbaer.is eða á skrifstofu menningarfulltrúa á Tjarnargötu 12 í síðasta lagi 6. febrúar nk.

Baldur Einarsson og Blær Hinriksson fara með aðalhlutverkið í myndinni og þykja fara á kostum. Hér er Kritstín Lea að fara yfir línur með strákunum.

Mamma númer tvö ●●Kristín Lea aðstoðaði leikstjóra ● við þjálfun ungu leikaranna í kvikmyndinni Hjartasteinn

Keflvíkingurinn Kristín Lea Sigurðardóttir spilar stórt hlutverk í kvikmyndinni Hjartasteini án þess þó að vera meðal leikara hennar. Hún hóf störf snemma í ferlinu, tók þátt í leikaravalinu og aðstoðaði leikstjóra við þjálfun allra ungu leikaranna, en unga leikaraliðið hefur sérstaklega verið lofað fyrir frábæra frammistöðu. Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, sími 421 0002, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www. vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

Kristín er menntuð leikkona og hefur leikið í stuttmyndum og auglýsingum auk þess sem hún lék eftirminnilegt hlutverk í Vonarstræti. Hún segist meira hafa fært sig bak við tjöldin þar sem leikaraval er orðið hennar sérgrein. „Ég veit ekki hvernig ég lenti í þessu. Ég er líklega bara mjög heppin að hafa þvælst inn í þennan heim,“ segir Kristín hógvær en hún hóf ferilinn fyrst sem aðstoðarkona Baltasars Kormáks í Djúpinu á sínum tíma. Vigfús maðurinn hennar er líka í „bransanum“ og spilar kvikmyndagerð því stóran sess í lífi þeirra hjóna. Kristín segist aðeins vera með annan fótinn í kvikmyndagerðinni að svo stöddu en annars starfar hún sem flugfreyja. Á næstunni munu birtast á Netflix þættir um Geirfinnsmálið en þar sá Kristín um að velja leikara. „Ég get bara sagt að það verða þarna einhver andlit sem Suðurnesjafólk ætti að kannast við.“ Hún segist vera með annað spennandi verkefni í vinnslu sem ekki sé tímabært að tala um.

Flutti með fjölskylduna austur

Kristín var leikþjálfi ungu leikaranna í Hjartasteini og aðstoðaði leikstjóra við leiklistarkennslu krakkanna yfir níu mánaða tímabil. „Þar köfuðum við í leiklist og æfðum atriði úr myndinni,“ segir hún en tökur stóðu yfir á Borgarfirði Eystra í tvo mánuði sumarið 2015. Á meðan tökum stóð flutti Kristín fjölskylduna með sér en

r u k s i f & ð flugstö

Náttúran spilar stóra rullu. Ungu leikararnir í myndinni og Kristín eru hér við æfingar í grænu grasinu.

maðurinn hennar starfaði einnig við myndina. „Við tókum strákana okkar og tengdamömmu með okkur og fluttum austur. Þetta er einn fallegasti staður á Íslandi og við kynntumst þar yndislegu fólki.“ Kristín segir að krakkarnir í myndinni hafi verið sérstaklega metnaðarfull og einlæg auk þess sem áhuginn hjá þeim var gríðarlegur. „Þetta var yndislegt tímabil og ég er mjög heppin að hafa kynnst þeim,“ segir Kristín sem oft var kölluð mamma númer tvö á tökustað enda hélt hún að mestu leyti utan um ungu leikarana við byrjun og lok hvers tökudags. „Mér finnst þetta vera svolítið krakkarnir mínir og er ótrúlega stolt af þeim.“ Kristín myndi vilja sinna leiklistinni meira en hún gerir en hún hefur snúið

sér meira að því að sjá um leikaraval. Þar er að mörgu að huga en sá ákveður í samráði við leikstjóra hvaða hlutverk hver fær og hverjir leika í myndinni. Kristín segist leita eftir því að leikarar séu með vítt svið í leiklistinni þegar þeir koma fram í áheyrnarprufum. Þeir þurfi að geta sýnt fram á allan tilfinningaskalann. Eins finnur hún stundum að leikarar hafi ákveðna nærveru eða sjarma og það hjálpar að sjálfsögðu til. Hjartasteinn hefur þegar hlotið 16 verðlaun víða um heim og hefur hlotið mjög góðar viðtökur eftir að hún fór í sýningar hérlendis. Kristín segir viðtökur hafa farið fram úr björtustu vonum þeirra sem komu að myndinni og vonar hún að svo verði áfram.

Á besta tíma!

fimmtudagskvöld kl. 20:00 og 22:00

eru meðal viðfangsefna okkar í þætti vikunnar. Einnig hugum við að

heilsunni. Sjá nánar á vf.is

Suðurnesjamagasín Sjónvarps Víkurfrétta hefur fengið nýjan sýningartíma á fimmtudagskvöldum á Hringbraut. Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00. Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18. Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22. Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.


Hvort sem þú vilt öryggi, sparneytni og lipurð í borgarsnúningana eða þægindi, rými og útsýni í skoðunarferðina þá er Honda CR-V fyrir þig. Bættu við hagstæðu verði og 5-stjörnu öryggi og þú sérð heildarmynd hagkvæma borgarjeppans sem hefur rakað að sér verðlaunum í öllum heimsálfum. Heildarmyndin endurspeglast í háu endursöluverði og verðlaunum sem áreiðanlegasti bílaframleiðandi heims í tæp 10 ár í röð.

www.honda.is

Njarðarbraut 15 • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 7800 • www.bernhard.is


8

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 26. janúar 2017

Kæru Suðurnesjamenn.

Verðum á heilsugæslunni í Keflavík föstudaginn 3. febrúar. Tímapantanir í síma 534 9600. Nánari upplýsingar www.heyrn.is Ellisif Katrín Björnsdóttir Heyrnarfræðingur veitir faglega ráðgjöf

HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrn // Hlíðasmára 11 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is // www.facebook.com/heyrnehf

Hópurinn sem fór með sigur af hólmi í keppninni.

„Wild Icelandic Cod“ vinnur Hnakkaþonið 2017 ●● Nýjar neytendapakkningar fyrir íslenskan fisk á Bandaríkjamarkaði

Deiliskipulagsbreyting Nesvellir Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst til kynningar eftirfarandi deiliskipulagstillaga. Deiliskipulagsbreyting Nesvellir, Reykjanesbæ Deiliskipulagssvæðið afmarkast af Krossmóa að norðan, Vallarbraut í vestri, Hjallavegi að sunnan og í austri af Njarðarbraut. Stærð svæðis er um 8 ha. Svæðið er íbúða- og þjónustusvæði og aðal breytingin er að fjölbýlishúsum er skipt upp í minni einingar og raðhúsum fækkað. Íbúðafjöldi helst óbreyttur. Tillaga ásamt fylgigögnum verður til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 26. janúar til 9. mars 2017. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á vef Reykjanesbæjar, www. reykjanesbaer.is Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess er til og með 9. mars 2017. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar Tjarnargötu 12. Reykjanesbæ 26. janúar 2017. Skipulagsfulltrúi

Vísir í Grindavík mun nota nýjar, um- Í Hnakkaþoninu reyna nemendur HR betur væri mætt þörfum neytenda hverfisvænar neytendapakkningar með sér í lausn verkefna sem tengjast fyrir vandaðar og hentugar pakknfyrir íslenskan fisk á Bandaríkjamark- íslenskum sjávarútvegi. Í áskorun ingar, á sama tíma og fullt tillit væri aði, nái vinningstillögur í Hnakka- Hnakkaþonsins að þessu sinni unnu tekið til bæði kostnaðar, sjálfbærni þoni HR og SFS, útflutningskeppni nemendur með Vísi í Grindavík, Mar- og umhverfisáhrifa. Það er afskaplega sjávarútvegsins, fram að ganga. Úr- el og prentsmiðjunni Odda að því að krefjandi að setja fram nýjar og gagnslit keppninnar voru kynnt í vikunni. móta tillögur um hvernig Vísir geti legar hugmyndir, þar sem tekið er tillit Sigurliðið skipa nemendur í fjármála- aukið fullvinnslu og pökkun á fersk- til allra mögulegra áhrifa þeirra. Liðin verkfræði og viðskiptafræði, þeir fiski á Íslandi, með aukinni áherslu á leystu þetta öll mjög vel og því var Bjarki Þór Friðleifsson, Fannar Örn neytendapakkningar og áttu að vega það alls ekki auðvelt fyrir dómnefnd Arnarsson, Jóhannes Hilmarsson, kostnað og ávinning slíkra breytinga. að velja sigurvegara. En dómnefndin leysti sitt hlutverk vel og Ómar Sindri Jóhannsfagmannlega og skilaði son og Sigurður Guðá endanum samhljóða mundsson. Hópurinn niðurstöðu.“ mun heimsækja SeaErla Ósk Pétursdóttir, fo o d Exp o Nor th gæða- og þróunarstjóri America, stærstu Vísis í Grindavík, sagði sjávarútvegssýningu það hafa verið virkiN-Ameríku í Boston í lega fróðlegt að heyra mars, í boði Icelandair mismunandi hugGroup og sendiráðs myndir um hvernig Bandaríkjanna á Ísumhverfisvænar framlandi. tíðarumbúðir geti litið Úrlausn þeirra bar út. „Það var magnað titilinn „Wild Icelandic hvað krakkarnir náðu Cod“ og fólst í hönnun að gera margt á stuttum nýrra neytendapakkntíma og liðin unnu fráinga til að auðvelda bæra vinnu í að benda Vísi að selja ferskan á ný tækifæri fyrir Vísi. fisk beint á Bandaríkjamarkað. Við hönnun Svona verða nýju pakkningarnar hjá Vísi fyrir Wild Icelandic Cod. Þau náðu að kynnast starfsemi fyrirtækisins vel umbúðanna var lögð á stuttum tíma og bentu á áhersla á ferskleika, gæði, umhverfisvernd og sögu Vísis en þær Fimm lið skiluðu inn fjölbreyttum frábær tækifæri til sóknar í umhverfis- og markaðsmálum.“ innihalda líka einfaldar uppskriftir, tillögum. sem henta meðvituðum neytendum Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, sagði í nútímasamfélagi. Einnig benti liðið við verðlaunaafhendinguna að liðin Þá segir Erla áherslu HR á að vera á kosti þess að nota umhverfisvæna hafi skilað góðum tillögum sem hafi í sterkum tengslum við atvinnulífið pappakassa í stað hinna hefðbundnu vakið athygli samstarfsfyrirtækjanna. ekki síður mikilvæga fyrir fyrirtæki frauðplastkassa í flutningum á fersk- „Viðfangsefni keppninnar í þetta sinn í sjávarútvegi. „Við viljum fá gott, um fiski. Pappakassarnir eru ódýrari, var að setja fram ítarlegar tillögur menntað fólk til starfa og viljum að fyrirferðarminni og taka mun minna um hvernig þróa mætti vinnslu og hæfir einstaklingar sjái störf í sjávarpökkun á fiski hjá Vísi þannig að enn útvegi sem spennandi framtíðarstörf.“ pláss í flutningum.

Prjóna vettlinga, sokka og húfur fyrir leikskólabörn ●●Prjónahlýja er samfélagslegt verkefni í Bókasafni Reykjanesbæjar

PANDA VEITINGASTAÐUR Þann 27. janúar mun vera Kínverskt nýár og að því tilefni mun Panda loka 27. janúar og opna aftur 28. janúar.

Opnunartími:

Virkadaga: 11:00 - 22:00 // Laugardaga: 12:00 - 22:00 // Sunnudaga: 16:00 - 22:00

„Við í safninu viljum endilega nýta krafta samfélagsins/gesta okkar og okkar sjálfra í góðar gjörðir og ætlum að hefja nýtt verkefni nú í janúar. Í Bókasafni Reykjanesbæjar verður stofnaður prjónahópur sem prjónar vettlinga, sokka og jafnvel húfur fyrir leikskólabörn Reykjanesbæjar. Við könnumst flest við það hversu óþægilegt það er að vera kalt á höndum, fótum og höfði. Litlir vettlingar, sokkar og húfur tínast gjarnan og gleymast. Því viljum við safna saman allri hlýjunni sem við getum prjónað

og gefa til leikskólanna sem þetta þiggja,“ segir í tilkynningu frá Bókasafni Reykjanesbæjar. Öll börn verða þá með hlýjar hendur, fætur og höfuð í útivistinni þó eitthvað gleymist heima eða týnist í dagsins amstri. Hægt verður að nálgast einfaldar uppskriftir í Bókasafni Reykjanesbæjar og garn. „Við tökum þakklátum höndum við afgangs garni sem leynist heima og að sjálfsögðu vettlingum, sokkum og húfum,“ segir jafnframt.

Síðasta þriðjudag hvers mánaðar klukkan 14:00 verður samverustund í safninu þar sem hægt er að koma með vettlinga, sokka, húfur eða garn og/eða setjast niður og prjóna góðum hópi. 15% afsláttur verður í Ráðhúskaffi á þessum tímum. Fyrsta samverustundin verður þriðjudaginn 31. janúar klukkan 14:00. Allar frekari upplýsingar má nálgast hjá Önnu Margréti verkefnisstýru Bókasafns Reykjanesbæjar í gegnum netfangið anna.m.olafsdottir@reykjanesbaer.is


VW Golf Highline Árgerð 2013, bensín Ekinn 54.000 km, sjálfsk.

Ásett verð 2.920.000,Tilboðsverð

2.550.000,-

ÚRVALS

HEKLUBÍLAR í REYKJANESBÆ

Komdu til okkar á Njarðarbraut 13 og prófaðu einn af gæðingunum í notuðum bílum. Sölumenn taka vel á móti þér!

Audi A4

Attraction2.0 TDI

1.4 TSI

Ásett verð:

Ásett verð:

4.190.000,-

Chevrolet Spark

2.950.000,-

LT 1.2

Árgerð 2012, bensín Ekinn 86.000 km, beinsk. Ásett verð:

950.000,-

Skoda Rapid Spaceback

Árg. 2015, dísil, Ekinn 30.000 km, beinsk. Ambition 1.6 TDI

VW Golf Variant Trendline

Árgerð 2015, bensín Ekinn 34.000 km, sjálfsk.

Árgerð 2013, dísil Ekinn 42.000 km, sjálfsk.

Ford Fiesta Trend 1.0 Árgerð 2014, bensín Ekinn 35.000 km, beinsk. Ásett verð:

1.890.000,-

Honda Civic 1.8

Árgerð 2013, bensín Ekinn 46.000 km, sjálfsk.

VW Polo

Trendline 1.0

Árgerð 2015, bensín, Ekinn 40.000 km, beinsk. Ásett verð:

1.990.000,-

Toyota Yaris Hybrid 1.5

Árgerð 2012, Bensín/rafmagn Ekinn 58.000 km, CVT skipting Ásett verð:

1.850.000,-

VW Tiguan

Sport&Style 2.0

Árgerð 2015, dísil Ekinn 35.000 km, sjálfsk.

TDI 4X4

Ásett verð:

4.950.000,-

MMC Pajero Instyle 3.2 DID Árgerð 2014, dísil, 4x4 Ekinn 41.000 km, sjálfsk. Ásett verð:

6.950.000,-

VW UP TakeUP 1.0

Peugot 208 Active 1.2

Árgerð 2016, bensín Ekinn 1.500 km, beinsk.

Árgerð 2013, bensín Ekinn 22.000 km, beinsk.

Ásett verð 2.490.000,-

Ásett verð 2.650.000,-

Ásett verð 1.830.000,-

Ásett verð 2.090.000,-

Tilboðsverð:

Tilboðsverð:

Tilboðsverð:

Tilboðsverð:

2.150.000,-

2.350.000,-

Njarðarbraut 13 Reykjanesbæ Símar 590 5091 og 590 5092 www.heklarnb.is

1.620.000,-

1.690.000,-


10

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 26. janúar 2017

HEIMA HJÁ SUÐURNESJAFÓLKI

DRAUMUR AÐ HANNA SÍNA EIGIN ÍBÚÐ

Í huggulegri lítilli íbúð í Keflavík hafa þau Guðrún Mjöll Stefánsdóttir og Sindri Þrastarson komið sér vel fyrir. Íbúðin er rúmgóð og björt þrátt fyrir að vera ekki nema 65m2. að stærð. Grár litur nýtur sín vel á veggjunum í bland við afar smekklega húsmuni. Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is

Þau Guðrún Mjöll og Sindri fóru að huga að því að kaupa sér íbúð að loknu námi en fram að því höfðu þau verið á leigumarkaði. Þau fundu litla íbúð í Keflavík sem var frekar illa farin og þarfnaðist algjörra endurbóta. Þau keyptu íbúðina í byrjun árs 2016 og hófust strax handa við að taka hana í gegn. Það þurfti gjörsamlega að breyta öllu. Gólfefni, loft, veggir, gluggar og innréttingar þurftu frá að víkja og nýtt að koma inn í staðinn. „Við vorum spennt fyrir þessu verkefni. Það er gaman að fá að gera sitt eigið,“ segir Sindri og Guðrún Mjöll bætir við að það hafi lengi verið draumur hjá henni að hanna íbúð eftir eigin höfði. Eins og oft vill verða þá var fjölskyldan tilbúin að rétta fram hjálparhönd en feður þeirra beggja voru mjög duglegir að aðstoða. „Þeir mættu hérna bara óumbeðnir alltaf eftir vinnu nánast og allar helgar, liggur við í hádegismatnum,“ segir Guðrún Mjöll sem starfar sem geislafræðingur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þau segjast bæði hafa lært helling af þessu ferli en Sindri er meistaranemi í byggingarverkfræði og því verið talsvert í kringum framkvæmdir. Þau eru þó sammála um það að hugmyndavinna og undirbúningur hafi líklega tekið mestan toll í ferlinu. Bestu hugmyndirnar fæðist jafnvel á koddanum rétt fyrir svefn. „Það voru ófáar stundirnar sem við eyddum á eldhúsgólfinu bara í að teikna eldhúsinnréttinguna upp,“ segir Sindri. Þeim þykir báðum eldhúsið hafa tekist sérstaklega vel til og eyða þar mörgum stundum við barborðið. Þar borða þau oftast morgunmat og dreypa á morgunkaffinu. „Þar er mikið borðpláss auk þess sem við náðum að koma fyrir uppþvotta- og þvottavél,“ en áður

Sígilt og flott: Fuzzy kollurinn er sígildur og fallegur en þau skötuhjú eru áhugasöm um fallega húsmuni.

voru tvö rými þar sem nú er eldhúsið, annað hugsað sem þvottahús. Þau segjast alveg vera tilbúin að fara í svona verkefni aftur þrátt fyrir að það hafi reynt mikið á. „Það var gaman að fara í gegnum þetta og upplifa sjálfur. Það komu alveg tímar þar sem maður hugsaði. „Hvað erum við búin að koma okkur út í?“ Þegar maður sá ekki fyrir endann á þessu,“ segir Sindri. Íbúðin var nánast fokheld eftir að öllu hafði verið sópað út. Skipta þurfti um alla glugga í íbúðinni. Opið á milli eldhúss og stofu var stækkað talsvert en þar var áður venjulegt hurðargat. Baðkar var á baðherberginu og bleikt klósett sem fékk að fjúka. Loftið yfir allri stofunni var mikið hraunað eins og tíðkaðist mikið áður fyrr. Tekin var sú ákvörðun að taka loftið aðeins niður og setja gifs á öll loftin. Þannig fengu þau frelsi til þess að setja mikla og góða lýsingu en vel staðsett led ljós njóta sín vel í íbúðinni.

Þurfti að hafa fyrir gráa litnum

Grái liturinn á veggjunum er sérstaklega smekklegur. Guðrún Mjöll var mjög hrifin af litnum en þurfti talsvert að hafa fyrir því að sannfæra aðra um að hann væri rétt val. „Það tók alveg sinn tíma,“ segir Sindri og þau hlæja bæði. „Hún stóð hins vegar föst á þessu og við erum mjög ánægð með litinn.“ Guðrún Mjöll ákvað að mála einn vegginn á ganginum með sérstakri kalkmálningu og er hún mjög sátt með útkomuna. Hún segir gráa litinn koma vel út með innbúinu og hurðum sem er að stórum hluta til hvítt að lit. „Liturinn á veggjunum er ljósgrár og er númer 1500. Það tók nokkrar ferðir í Flugger og nokkrar prufur til þess að finna ljósgráa litinn sem ég hafði í huga, en þeir voru farnir að þekkja mig ansi vel þar og veittu alltaf jafn frábæra þjónustu. Ég fékk síðan kalkmálninguna í Sérefnum en ég vildi hafa hana örlítið dekkri, en hann er númer 2074.“

FYRIR EFTIR

Eftirlætis rýmið: Eldhúsið er sérstaklega vel heppnað. Mikið borðpláss og grái liturinn fær að njóta sín þar sem engir efri skápar eru í eldhúsinu. Þau brutu niður vegg þar sem þvottahús var áður og nú er þvottavélin inn í eldhúsinnréttingunni.


fimmtudagur 26. janúar 2017

11

VÍKURFRÉTTIR

Mikil vinna en vel þess virði: Þau Guðrún Mjöll og Sindri una sér vel í litlu íbúðinni sinni sem þau gerðu upp frá a til ö. Þau eru sammála um að hugmyndavinna og undirbúningur hafi líklega tekið mestan toll í ferlinu.

Íbúðin er 65 fermetrar. „Við vildum hafa parketið fremur ljóst en líflegt að sama skapi og einnig vildum við að plankarnir væru breiðir. Parketið fengum við í Birgisson en úrvalið hjá þeim er ótrúlega flott. Það sem varð fyrir valinu er númer R1006.“

FYRIR

Kalkaður veggur : Guðrún Mjöll ákvað að mála einn vegginn á ganginum með sérstakri kalkmálningu og er hún mjög sátt með útkomuna enda glæsilegt eins og sjá má.

EFTIR

„Það komu alveg tímar þar sem maður hugsaði. Hvað erum við búin að koma okkur út í?“

Einstök lýsing: Ljósið frá Tom Dixon nýtur sín vel yfir borðstofuborðinu. Lýsingin í íbúðinni er einstaklega vel heppnuð og ljósin falleg.


12

VÍKURFRÉTTIR

Innflytjendur auðga samfélagið

●●Sveindís Valdimarsdóttir og samstarfsfólk hennar hjá MSS kenna innflytjendum íslensku ●●Segir mikilvægt að taka vel á móti innflytjendum og sýna þeim virðingu og skilning Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@vf.is

sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og bíður niðurstöðu Útlendingastofnunar. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir þann hóp að hafa eitthvað fyrir stafni. Staðan hjá þeim er oft erfið og það finnum við, óvissan um framtíðina hjá þeim er mikil.“ Sumar kvennanna hafa eignast börn hér á landi og koma með ung börn sín með sér í skólann.

Sveindís Valdimarsdóttir, verkefnastjóri íslenskunámskeiða hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, hefur í starfi sínu fylgst með Suðurnesjum breytast úr nokkuð einsleitu samfélagi í mesta fjölmenningarsvæði á Íslandi. Hlutfall innflytjenda á Suðurnesjum er 16 prósent, miðað við 9,6 prósent á landinu í heild. Sveindís segir það Innflytjendum fjölgar enga spurningu að innflytjendur hafi í uppsveiflunni auðgað samfélagið á Suðurnesjum. Í sumum tilvikum þurfa innflytjendur Sveindís hafði verið grunnskólakenn- á ýmsum stuðningi að halda fyrstu ari í 27 ár þegar hún byrjaði að kenna mánuðina í nýju landi. MSS er staðsett innflytjendum íslensku fyrir áratug í Krossmóa í Reykjanesbæ. Sveindís síðan. Fyrst í stað kenndi hún inn- segir að ef til vill væri hentugra ef MSS flytjendum íslensku í vinnuskúrum, og skrifstofur Reykjanesbæjar væru til dæmis hjá byggingafyrirtækjum. nær eða jafnvel í sama húsinu. „Við Hún kenndi líka fiskverkafólki í Sand- kennararnir hittum fólkið á hverjum gerði. Ýmislegt hefur breyst síðan og í degi og oft er það þannig að við erum dag er íslenskukennsla á vegum MSS þau fyrstu sem það leitar til ef eittvíða í fyrirtækjum og laga Sveindís og hvað bjátar á. Stundum þarf fólk aðsamstarfsfólk hennar kennsluna að stoð strax og þá væri gott að það væri hverjum hóp fyrir styttra að fara, enda sig og velja kennara margar með barnamiðað við þarfir vagna eða kerrur og nemenda. MSS alltaf fótgangandi. getur boðið upp á Ef skrifstofur bæjarúrval ólíkra kennins væru nær væri ara og sumir þeirra þetta auðveldara og eru af erlendu bergi. við gætum unnið Hefur meðal annars enn betur saman. verið hægt að bjóða Annars hefur samupp á kennara sem starf við Reykjat a l a p ólsku, t ænesbæ verið með lensku, rússnesku og miklum ágætum, litháísku og er það sem og við aðrar mikils virði fyrir stofnanir eins og nemendur sem eru Vinnumálastofnun, að hefja íslenskuVirk og VerkalýðsSveindís Valdimarsdóttir, nám. „ Svo má félagið en þær stofneiginlega segja að anir eru einmitt hér við hlaupum á eftir í Krossmóanum. Þá því hvernig vinnuhöfum við einnig markaðurinn þróast. Við kennum átt gott samstarf við Rauða krossinn fiskverkafólki aðeins öðruvísi orða- en þau félagasamtök eru gríðarlega forða en til dæmis smiðum og starfs- mikilvæg erlendum borgurum sem fólki við flugafgreiðslu,“ segir Svein- eru að fóta sig hér á landi.“ dís. Hjá MSS hefur verið unnið að ýmsum Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heim- verkefnum sem hafa verið styrkt af inum en undanfarin misseri og hefur Evrópusambandinu. Sveindís segir nemendahópurinn hjá MSS endur- þau öll hafa stuðlað að bættum samspeglað þá stöðu og segir Sveindís skiptum við ólíka menningarheima. mun fleiri nemendur í dag á flótta Eitt af þessum verkefnum er Lingua vegna stríðsátaka en fyrir áratug. Café sem er á Café Petite á þriðjudagskvöldum frá klukkan 20 til 21:30. Þar Búa fólk undir vinnumarkaðinn gefst fólki tækifæri til að hittast og tala Landnemaskólinn er námskeið hjá saman á mismunandi tungumálum og MSS þar sem nemendur eru undir- læra hvert af öðru. ,,Lingua Café mun búnir fyrir þátttöku á vinnumark- hefjast aftur 7. febrúar og munum við aði hér á landi. Í hópnum þennan auglýsa það vel á Facebook síðunni veturinn eru átján konur frá ýmsum okkar og finna okkur fleiri tengiliði stöðum í heiminum; Gana, Nígeríu, af ólíkum uppruna til að koma inn Kanada, Litháen, Lettlandi og Sómal- með okkur. Við erum með alls konar íu. Í Landnemaskólanum er kennd skemmtileg verkefni og er þetta því íslenska, nemendum hjálpað við gerð kjörið tækifæri til að koma, læra og starfsferilskrár og áhugasviðspróf lögð æfa tungumál og vonumst við til að fá fyrir. Þá er einnig unnið að ýmis konar fullt af nýju fólki inn þegar við byrjum listsköpun og sjálfstyrkingu. Svein- á ný. Ég hvet fólk til að afla sér uppdís segir mikilvægt fyrir fólk með lýsinga hjá okkur í MSS og vera bara menntun og reynslu að fá hana metna óhrætt að mæta. Þetta er ekki síður hér á landi og allt of mikið um að inn- fyrir okkur Íslendinga. Það er alltaf flytjendur sinni störfum sem þeir hafa gaman að læra ný tungumál og kynnekki ánægju af. „Það er alltaf góð til- ast nýju fólki.“ finning fyrir fólk að finna sig í starfi sem því líkar. Við gætum gert meira Nú þegar uppsveifla er hér á landi, til að hjálpa innflytjendum að komast meðal annars vegna fjölda ferðaí betri störf en vantar fleira fólk og manna, fjölgar fólki sem flytur til Ísfjármagn.“ lands vegna atvinnu. Sveindís segir Nemendur Landnemaskólans búa mikilvægt að hafa í huga að því fylgi við mismunandi aðstæður. Flestir eru jafnt réttindi sem skyldur að taka vel komnir með dvalarleyfi og kennitölu á móti því fólki og sýna virðingu og hér á landi og sjá því fram á að dvelja skilning. áfram á Íslandi. Í hópnum er líka fólk

fimmtudagur 26. janúar 2017


DAGLEG OFURTILBOÐ ÚT JANÚAR VNR. 41100145 MATARSTELL fyrir 6 hvítt með silfurrönd

fimmtudagur

26 7.995kr. JANÚAR

Almennt verð: 14.995 kr.

JANÚAR

Almennt verð: 2.197 kr./m2

58%

AFSLÁTTUR

VNR. 52253215 LED LOFTLJÓS 2x5W, 800lm, 32cm

1.990kr./m2 40%

68%

sunnudagur

VNR. 13315038 STALA VASKUR P-50, 53x37x18cm

28 14.995kr.

VNR. 42308345 BRENNIKUBBUR 1 kg, Goldenflame

29 295kr. JANÚAR

Almennt verð: 47.495 kr.

Almennt verð: 495 kr.

40%

VNR. 15332663 ELDHÚSTÆKI CONCETTO m/ barka

AFSL ÁTTUR

18.995kr. 34%

AFSLÁTTUR

2.490kr.

AFSLÁTTUR

Almennt verð: 3.300 kr./m2

AFSLÁTTUR

Almennt verð: 28.995 kr.

AFSLÁTTUR

VNR. 19606030 JH VEGGFLÍS 10x30cm, 8mm, hvít glans

AFSL ÁTTUR

JANÚAR

VNR. 0113448 ELEGANT OAK 192x1285, 8mm

27 1.395kr./m2

47%

laugardagur

37%

föstudagur

Almennt verð: 5.995 kr.

mánudagur

30 JANÚAR

VNR. 74810231 HÁÞRÝSTIDÆLA AQT 33-11, 100B

9.995kr. Almennt verð: 16.995 kr.

41%

AFSL ÁTTUR

25%

AFSLÁTTUR

VNR. 13002370 VEGGHENGT WC 50cm, Nautic, án setu

TAKMARKAÐ MAGN AF HVERRI VÖRU

50%

AFSLÁTTUR

þriðjudagur

17.995kr.

JANÚAR

VNR. 10708505 HANDLAUG SEVILLA 56x45x16cm

31

Almennt verð: 23.995 kr.

9.795kr. Almennt verð: 19.795 kr.

AUÐVELT AÐ VERSLA Á BYKO.IS SENDUM ÚT UM ALLT LAND

Allar verðupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Hvert tilboð gildir í einn dag meðan birgðir endast.

GLEÐI


14

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 26. janúar 2017

Sigurbjörn ætlar að festa kaup á góðri fasteign til framtíðar fyrir lottóvinninginn góða. Hann ætlar að staðgreiða eignina og segir forréttindi að þurfa þá ekki framar að greiða af fasteignalánum. VF-mynd/dagnyhulda.

2

15

15 33

34

37

38

VANN RÚMAR

53 MILLJÓNIR ●●Ætlar að kaupa fasteign og píanó

„Ég var rosalega spenntur í tíu mínútur en samt alveg niðri á jörðinni, það þarf meira en þetta til að koma mér úr jafnvægi,“ segir Sigurbjörn Arnar Jónsson, fertugur Keflvíkingur, sem vann rúmar 53 milljónir í Víkingalottói 21. desember síðastliðinn þegar hann lýsir stundinni þegar honum varð ljóst að hann hefði dottið í lukkupottinn. Hann fékk vinninginn greiddan út frá Íslenskri getspá í síðustu viku. Sigurbjörn naut augnabliksins og prentaði út reikningsyfirlit til að eiga og fékk sér tvennutilboð á Domino´s í tilefni dagsins. Hann ákvað að reyna ekki að halda halda fréttunum af stóra vinningnum leyndum. „Það hafa allir verið mjög ánægðir með þetta fyrir mína hönd. Ég bara gat ekki haldið þessu inn í mér. Eftir að ég sagði mínum nánustu frá þessu hefur þetta ekki verið neitt leyndarmál enda engin ástæða til að óttast að aðrir viti af þessu.“ Sigurbjörn er einhleypur og á eitt barn. Hann er bílstjóri hjá Crew ehf. og fer starfs síns vegna oft á Olísstöðvarnar og þar með talið á Básinn í Reykjanesbæ þar sem hann keypti vinningsmiðann. Oft kaupir Sigurbjörn lottómiða á Olísstöðvunum, alltaf sjálfval. Oftast verður Víkingalottó fyrir valinu en líka íslenska lottóið og stundum Euro Jackpot. Yfirleitt kaupir Sigurbjörn tvo miða með jóker en laugardaginn 17. desember ákvað hann að hafa þá þrjá. Eftir að dregið var miðvikudaginn 21. desember las Sigurbjörn frétt á Vísi um að vinningurinn hefði komið á miða sem keyptur var í Básnum. „Ég var bara heima á náttbuxunum og lottómiðarnir úti í bíl og ég nennti varla að sækja þá. Svo hringdi bróðir minn

og við fórum að ræða um þetta og hann hvatti mig til að sækja miðana þar sem það voru góðar líkur á að ég hefði unnið.“ Sigurbjörn fór fjórum til fimm sinnum yfir miðana til að fullvissa sig um að hafa unnið. „Ég bara hélt um hausinn á mér og hugsaði: Ég trúi þessu ekki! Svo varð ég alveg rólegur og hringdi í hluta af mínum nánustu.“ Eftir á stóðst hann ekki mátið og skrifaði við fréttina á Vísi að hann vonaði að vinningurinn hefði skilað sér á góðan stað. Sigurbjörn keyrir áhafnir WOW air og eftir aksturinn að fimmtudagsmorgni 22. desember fór hann að skrifstofu Íslenskrar getspár og beið eftir að þar yrði opnað. Hann geymdi miðana á góðum stað í brjóstvasanum. „Hjá Íslenskri getspá var miðanum rennt í gegnum sams konar vél og gert er í sjoppum og það komu fagnaðarlæti úr henni. Svo fór ég á fund með gjaldkeranum þar sem við gengum frá formsatriðum og mér var tilkynnt að vinningurinn yrði greiddur út fjórum vikum síðar, 18. janúar.“ Vinningshöfum hjá Íslenskri getspá stendur fjármálaráðgjöf til boða en Sigurbjörn afþakkaði hana enda kveðst hann vera umkringdur fjármálasérfræðingum. Á Þorláksmessu sagði Sigurbjörn nokkrum góðum vinum frá vinningnum. Á aðfangadagskvöld gaf hann fjölskyldunni veglegri gjafir en vanalega og sagði þeim svo frá vinningum eftir að pakkarnir höfðu verið opnaðir. Það fyrsta sem Sigurbirni datt í hug að fjárfesta í fyrir sjálfan sig var fasteign og píanó. „Mig hefur dreymt um að eignast píanó í mörg ár og ætla að láta það eftir mér núna.“ Sigurbjörn hefur aðeins leikið á píanó í gegnum tíðina. Hann var

við nám í Danmörku í nokkur ár og í skólanum voru bæði píanó og flygill sem hann lék á. Hann er búinn að kíkja við í Tónastöðinni og kynna sér úrvalið. „Ég er mjög hrifinn af „boogie woogie-tónlist“ sem er píanóblús og undirtegund af jazzi. Sá sem aðstoðaði mig í Tónastöðinni er góður píanóleikari og við tókum saman smá dúett og það var mjög gaman.“ Sigurbjörn á íbúð í fjölbýlishúsi og ætlar að selja hana og nýta lottóvinninginn til að fjárfesta í góðri fasteign í Keflavík. Hann segir ekkert annað koma til greina en að búa í Keflavík enda sé hann af þriðju kynslóð Keflavíkinga. Verst er þó að lítið sem ekkert af fasteignum eru í boði þar sem eftirspurn eftir fasteignum á Suðurnesjum gríðarleg um þessar mundir. Sigurbjörn ætlar að staðgreiða eignina og kveðst þakklátur að vera í þeirri stöðu að þurfa ekki að greiða af fasteignaláni í framtíðinni. Sigurbjörn er einlægur aðdáandi Elvis Presley og því er á stefnuskránni á næsta ári að fara í nokkurra daga ferð til Bandaríkjanna og koma við á Graceland, heimili rokkkóngsins í Memphisfylki. Á Þorláksmessu keypti Sigurbjörn leikföng og fór með til Fjölskylduhjálpar. Þaðan var þeim komið til barna fyrir aðfangadagskvöld. „Sonur minn fór með mér að kaupa leikföngin og það var mjög góð tilfinning að afhenda þau. Þau hjá Fjölskylduhjálp vantaði einmitt leikföng fyrir jólin. Upphæðin sem ég vann í lottóinu er það há að það er nú ekki annað hægt en að deila henni með öðrum, sérstaklega degi fyrir jól,“ segir Sigurbjörn léttur í bragi.

Birt var frétt á Vísi um að vinningsmiðinn hafi verið keyptur í Básnum. Þegar Sigurbirni var orðið ljóst að hann væri sá heppni stóðst hann ekki mátið að skrifa við fréttina.


Suðurnesjamagasín er á Hringbraut í kvöld

k k o k s g o p hlau

lki ó f u s s e r h eð m k í v a l f e K ií n n i t u a r b r á Vetra

Einnig í þætti vikunnar: Auknir möguleikar í útflutningi á ferskum fiski frá Keflavíkurflugvelli. Þá skoðum við nýja 7000 fermetra stækkun á suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.

Á besta tíma!

fimmtudagskvöld kl. 20:00 og 22:00

Suðurnesjamagasín Sjónvarps Víkurfrétta hefur fengið nýjan sýningartíma á fimmtudagskvöldum á Hringbraut. Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00. Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18. Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22. Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.

V I LT Þ Ú V E R Ð A H L U T I AF GÓÐU FERÐALAGI? Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið. Nú vantar okkur fleiri til að vera hluti af góðu ferðalagi með okkur. Við leitum að metnaðarfullum, drífandi og skipulögðum einstaklingum sem hafa góða samskiptahæfileika, lipra og þægilega framkomu, eru sveigjanlegir og geta unnið undir álagi. S TA R F S M E N N Í R E K S T R A R S TJ Ó R N S TÖ Ð Helstu verkefni eru úthlutun á flugvélastæðum og brottfararhliðum, eftirliti á kerfum rekstrar– stjórnstöðvar og farangurssal Keflavíkurflugvallar. Um er að ræða framtíðar- og sumarstörf í krefjandi umhverfi, unnið er á dag- og næturvöktum. 20 ára aldurstakmark. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í apríl eða maí.

SÉRFRÆÐINGUR Á REKSTRARSVIÐI Helstu verkefni eru þátttaka í stefnumörkun og uppbyggingu á gæða- og öryggismálum sviðsins. Ritun verklagsreglna og vinnuleiðbeininga í flugvernd. Utanumhald þjónustusamninga og starfsleyfisskyld gögn sviðsins.

Hæfniskröfur: • Stúdentspróf eða sambærileg menntun • Reynsla af upplýsingakerfum er kostur • Þekking og reynsla af starfsemi flugvalla er kostur

Hæfniskröfur: • Lögfræðimenntun eða sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi • Hæfni í íslenskri textagerð og framsetningu efnis • Geta sett fram flókið viðfangsefni á árangursríkan hátt • Þekking og reynsla tengd gæðakerfum er kostur

Umsóknarfrestur: 26. febrúar

Umsóknarfrestur: 9. febrúar

Isavia hlaut gullmerki PwC fyrir launajafnrétti í jafnlaunaúttekt PwC 2015 og 2016. Við erum stolt af þeirri niðurstöðu og er hún í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað.

S TA R F S S T Ö Ð : K E F L AV Í K U R F L U G V Ö L L U R

UMSÓKNIR: I S AV I A . I S/AT V I N N A

Dagný starfar hjá farþegaþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Hún er hluti af góðu ferðalagi.


16

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 26. janúar 2017

Holtaskóli, starfið í hnotskurn Skólastarf í Holtaskóla hefur verið í stöðugri framþróun í lengri tíma. Við höfum einungis innleitt nýja þætti ef við erum þess fullviss að þeir séu nemendum til framdráttar. Til að svo megi verða, verðum við Eðvarð Þór Eðvarðsson, að meta þessa þætti reglulega og skólastjóri bregðast við ef niðurstöður eru Holtaskóla. ekki í takti við væntingar. Það er ánægjulegt að segja frá því að stöðugleiki í niðurstöðum sýnir að okkur hefur tekist vel upp og hvetur það okkur áfram á sömu braut. Dæmi um þætti þar sem okkur hefur tekist að bæta og mynda stöðugleika í kringum eru: Lestur, samræmd könnunarpróf, líðan nemenda, stoðþjónusta, PBS (atferlisstefna skólans), starfsmannamál, verkferlar í hinum ýmsu greinum og þátttaka nemenda í ýmsum viðburðum sbr. Skólahreysti.

Metnaðarfullt starfsfólk

Í Holtaskóla eru um 70 starfsmenn. Þegar markmiðið er að gera vel á hinum ýmsu sviðum er mikilvægt að starfsmenn séu samstíga í átt að þessum markmiðum og vinni sem ein heild. Góðir kennarar eru forsendan fyrir góðum námsárangri undanfarinna ára, en stöðugleiki hefur verið í háu hlutfalli réttindakennara. Við teljum okkur vera ákaflega lánsöm með starfsfólk. Metnaður þess endurspeglast í einlægum og góðum samskiptum sem skilar sér í betri líðan og árangri nemenda.

Þáttur foreldra er veigamikill Foreldrar gegna lykilhlutverki í skólagöngu barna sinna. Jákvæður stuðningur þeirra við nám og aðra þætti er snúa að skólastarfinu er ómetanlegur.

Við höfum í langflestum tilfellum verið í fyrirmyndarsamstarfi við foreldra þegar á þarf að halda. Við hvert tækifæri hvetjum við fólk til að vera í góðu sambandi og koma með ábendingar varðandi starfið. Margar ábendingar hafa verið þarfar og betrumbætt starfið.

Lýðræðisráð nemenda

Mikilvægt er að nemendur geti haft áhrif á skólastarfið með því að koma skoðunum sínum og hugmyndum á framfæri. Stofnað hefur verið lýðræðisráð nemenda sem fjalla á um ýmsa þætti sem snúa að skólastarfinu. Lýðræðisráðið mun meðal annars fjalla um stefnu skólans, skólareglur, líðan nemenda, reglur um símanotkun og fleira sem snýr að þeim með einum eða öðrum hætti. Við fórum af stað með þetta starf fyrir tveimur árum og hefur það þegar skilað góðum árangri í tengslum við einelti, nýtt skipulag á bókasafni og tækjareglur.

Næstu skref

Skólastarf er og á að vera lifandi starf. Það er í okkar verkahring að fylgjast vel með því sem rúmast innan skólastarfsins og getur hugsanlega haft jákvæð áhrif á þroska og framgang nemenda okkar. Skólarárið 2016 – 2017 munum við uppfæra stefnu Holtaskóla, kynna stefnuna fyrir öllum í skólasamfélaginu og vinna skipulega eftir henni. Einnig erum við að skoða þátttöku í Heilsueflandi grunnskóla þar sem markmiðið er að stuðla að góðri heilsu og líðan nemenda og starfsfólks skólans. Ákvörðun um þátttöku verður tekin vorið 2017.

Hugleiðingar að loknu útkalli Lengi býr að fyrstu gerð segir máltækið og undir það má taka. Miklu máli skiptir að foreldrar séu meðvitaðir um hlutverk sitt, að þeir setji sér og börnum sínum mörk, reglur og markmið. Foreldrar gegna lykilhlutverki í vellíðan barna sinna og skipta verndandi þættir hvað mestu máli en með verndandi þáttum er til dæmis átt við stuðning foreldra, stuðning vina, vellíðan Anna Hulda í skóla, íþróttaiðkun og tómEinarsdóttir stundir, góða næringu og heilog Anna Sigríður Jó- brigðar svefnvenjur. Foreldrar hannesdóttir geta einmitt haft áhrif á ofangreinda þætti, til dæmis með Verkefnaþví að vera í góðu sambandi stjórar við skólann, hvetja börn til að FFGÍR stunda reglubundna hreyfingu, setja reglur um notkun snjalltækja eins og að börn og unglingar leggi frá sér skjátæki klukkustund fyrir svefntíma og geymi þau í hæfilegri fjarlægð á svefntíma og helst ekki í svefn-

herbergi, hvetja til lesturs fyrir svefninn og síðast en ekki síst með því að vera góðar fyrirmyndir. Niðurstöður Rannsókna og greiningar um rannsókn um ungt fólk sýnir að kvíði og þunglyndi hefur aukist hjá börnum í 8. til 10. bekk á undanförnum árum og þá sérstaklega hjá stúlkum. Leiddar eru líkur að því að tengsl séu á milli notkunar samskiptamiðla hjá ungu fólki og kvíða sem getur svo valdið svefnleysi. Snjallsímar og samskiptamiðlar eru stór hluti af lífi ungmenna, því verður líklega ekki breytt en það eru engu að síður ákveðnir þættir sem foreldrar geta haft áhrif á. Ef börn alast upp við hvatningu og skýr mörk frá upphafi þá er líklegra að þau temji sér betri venjur þegar þau eldast (Ungt fólk, 2016).

StopphopurBokasafn, myndatexti: Stopp-hópurinn afhenti Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra og Guðlaugi Sigurjónssyni, sviðsstjóra Umhverfissviðs, viðurkenningarskjalið til varðveislu. VF-mynd/dagnyhulda

Viðurkenning Stopp-hópsins varðveitt í ráðhúsinu ■■Stopp-hópurinn, sem barist hefur fyrir úrbótum á Reykjanesbraut, var á dögunum valinn Suðurnesjamenn síðasta árs að mati Víkurfrétta. Viðurkenningarskjal sem hópurinn hlaut af því tilefni var afhent Reykjanesbæ til varðveislu í gær. Hópurinn var stofnaður á Facebook og eru meðlimir um 16.000 talsins. Viðurkenningarskjalinu verður fundinn staður uppi á vegg í þjónustuveri Reykjanesbæjar í ráðhúsinu við Tjarnargötu þar sem gestir og gangandi geta lesið það. Reykjanesbæ var afhent viðurkenningarskjalið til að sýna þakklæti fyrir samstarf í baráttu fyrir úrbótum á Reykjanesbraut.

Hugleiðingar að loknu útkalli Samfélagið allt hefur haldið í sér andanum í rúma viku í þeirri von að ung stúlka í blóma lífsins finnist heil á húfi. Allir lögðust á eitt að finna þessa stúlku og snerti þetta mál taugar samfélagsins á einn eða annan hátt. Ég og félagar Fyrir hönd mínir í Björgunarsveitinni SuðurBjörgunarsveitarinnar nes og aðrir meðlimir í LandsSuðurnes, björgu vorum ein af stórum hópi Bjarni Rúnar leitarfólks sem tóku virkan þátt í Rafnsson leitinni að þessari stúlku. Þarna Formaður vorum við saman komin til að Björgunarsveitarinnar aðstoða lögreglu, landhelgisgæslu Suðurnes og aðstandendur Birnu í leitinni. Þessi leit var skipulögð og víðfeðm því ekki var vitað hvar hún væri. Eftir rúma viku skilaði svo leitin árangri og var staðfest að Birna væri fundin en því miður var hún ekki heil á húfi. Um leið og maður heyrði þær fréttir var maður sáttur sem leitarmaður að markmiðið „að finna hana“ hafi náðst en um leið voru engin orð sem fá því lýst hversu hryggur maður var að vita að hún væri ekki á lífi. Maður finnur til með ættingjum og vinum hennar og vil ég senda fjölskyldu hennar, aðstandendum og vinum mínar dýpstu samúðarkveðjur. En nú þegar leitinnni er lokið og heim er komið að þá fór hugur minn að reika. Ég fór að hugsa um þessa ungu stúlku, leitina í heild sinni og hvernig samfélagið tók þátt í þessu leitarverkefni með einum eða öðrum hætti. Samkennd, fagmennska, fórnfýsi og kærleikur eru orð sem eru ofarlega í mínum huga. Það birtist vel

í störfum björgunarsveita, slysavarnadeilda, lögreglu og landhelgisgæslu sem voru með það eitt að markmiði að finna stúlkuna. Ég er stoltur af öllum þeim sem tóku þátt og af mínu fólki og er stoltur að vera partur af Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Í því samhengi, eftir að hafa starfað í mörg ár í björgunarsveit, þá get ég sagt það með sanni að starf björgunarsveita og slysavarnadeilda er á engan hátt sjálfgefið. Á bak við hverja björgunarsveit og slysavarnadeild eru þó nokkrir bakhjarlar og ber fyrst að nefna maka okkar og fjölskyldur sem gera okkur kleift að gefa okkur tíma til að sinna þessu óeigingjarna starfi. Ásamt þeim er líka samfélagið í heild sinni sem hefur sýnt það undanfarin ár að vera okkur dyggur bakhjarl. Það hefur sýnt sig með ýmsum styrkjum

Á besta tíma! kl. 20:00 og 22:00

Lumar þú á ábendingu um áhugavert efni í þáttinn? Sendu okkur línu á vf@vf.is

til okkar í formi matar, peninga sem og að styðja okkur í þeim fjáröflunum sem við höfum lagt í sbr. okkar árlegu Neyðarkallasölu og flugeldasölu. Fyrir þetta erum við afar þakklát því án þessa stuðnings væri starf okkar mun erfiðara. Þessi samkennd og samhugur samfélagins sýndi sig enn á ný um síðustu helgi í leitinni að Birnu. Þá buðu hin ýmsu fyrirtæki og einkaaðilar fram aðstoð í formi matar, peninga og tækja svo eitthvað sé nefnt. Allir lögðust á eitt að hjálpa. Fyrir það sem okkur í Landsbjörgu bárust um helgina er ég sem björgunarsveitarmaður þakklátur og hrærður. Ég er einnig þakklátur fyrir allan þann stuðning sem við höfum fengið og falleg orð í okkar garð í samfélaginu. Takk fyrir okkur.

Nýr sýningartími

á fimmtudagskvöldum á Hringbraut. Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00. Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18. Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22. Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.


fimmtudagur 26. janúar 2017

17

VÍKURFRÉTTIR

Þorrablót Suðurnesjamanna í Garði

■■Stærsta þorrablótið sem haldið er á Suðurnesjum ár hvert er þorrablót Suðurnesjamanna í Garði. Það eru Björgunarsveitin Ægir og Knattspyrnufélagið Víðir sem standa að þorrablótinu sem nú var haldið í áttunda sinn. Veislustjóri í ár var Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Eins og undanfarin ár sá Axel Jónsson og Skólamatur um matinn. Skemmtiatriði voru fjölbreytt og þá var dansað fram á nótt. Ljósmyndari Víkurfrétta, Hilmar Bragi, smellti af meðfylgjandi myndum á þorrablótinu.

Okkar innilegustu þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkæru dóttur okkar, systur, barnabarns og frænku,

Ölmu Þallar Ólafsdóttur Mánagötu 25, Grindavík,

Ólafur MárGuðmundsson, Lóa Mjöll Ægisdóttir, Hulda Björk Ólafsdóttir, Guðmunda Ösp Ólafsdóttir, Guðmundur Sverrir Ólafsson, Guðmunda Jónsdóttir, ÆgirSigurðsson, Alma Vestmann, og aðrir aðstandendur.

Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, sonar, föður okkar, tengdaföður og afa,

Magnúsar Marels Garðarssonar, húsasmiðs, Kjarrmóa 14, Reykjanesbæ.

Sú vinátta og umhyggja sem hefur umlukið okkur er ómetanleg. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Keflavíkurkirkju. Guðmunda Helgadóttir, Elsa Lilja Eyjólfsdóttir, Garðar Helgi Magnússon, Linda Björk Ragnarsdóttir, Bryndís Jóna Magnúsdóttir, Jóhann Birnir Guðmundsson, Hildur María Magnúsdóttir, Sævar Sævarsson, og barnabörn.

Innilegar þakkir til allra er auðsýndu okkur samúð og hlýju vegna andláts og útfarar okkar ástkæra

Stefáns Stefánssonar

Vesturhópi 20, Grindavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahjúkrunar Grindavíkur og Hjartadeildar Landspítalans. Eyrún Jónsdóttir, Ingigerður Stefánsdóttir, Stefán Stefánsson, Guðrún Helga Rúnarsdóttir, Fjóla Ósk Stefánsdóttir, Júlíus M. Steinþórsson, barnabörn og barnabarnabarn.

Kær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,

Katrín Árnadóttir,

Frá Skógum í Öxarfirði,

sem lést á Hrafnistu (Hlévangi) laugardaginn 21. janúar, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 1. febrúar kl. 13:00. Gunnar Már Yngvason, Sigríður Katrínar Yngvadóttir, Hrefna Yngvadóttir, ömmubörn og langömmubörn.

Ásta Pálína Stefánsdóttir,

Signý Eggertsdóttir - minning Þegar einhver fellur frá fyllist hjartað tómi en margur síðan mikið á í minninganna hljómi. Á meðan hjörtun mild og góð minning örmum vefur þá fær að hljóma lífsins ljóð og lag sem tilgang hefur. Ef minning geymir ást og yl hún yfir sorgum gnæfir því alltaf verða tónar til sem tíminn ekki svæfir. (Kristján Hreinsson) Fallin er frá kær og elskuleg vinkona, Signý Eggertsdóttir. Mánudeginum 2. janúar gleymum við seint, kær vinkona okkar lést og okkur setti hljóða. Mennirnir okkar eru félagar í Karlakór Keflavíkur og

við konurnar í Kvennaklúbbi kórsins. Samvera okkar kvennanna í þessum félagsskap er yndisleg þar sem Signý var mjög virk og lét sig aldrei vanta. Við systurnar og Signý stofnuðum ásamt eiginmönnum okkar lítinn ferðahóp sem ferðaðist vítt og breitt um landið á hverju sumri. Þau hjónin Palli og Signý voru frábærir fararstjórar og ferðafélagar og þökkum við þeim kærlega fyrir þessar skemmtilegu ferðir. Elsku Palli, missir þinn er mikill. Við vottum þér, börnum ykkar, tengda- og barnabörnum dýpstu samúð. Blessuð sé minning þín, elsku Signý. Þóra og Guðveig (Veiga).


18

VÍKURFRÉTTIR

LAUS STÖRF

fimmtudagur 26. janúar 2017

ÍÞRÓTTIR

Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is

HEIÐARSKÓLI Starf í íþróttamiðstöð STJÓRNSÝSLUSVIÐ Skjalavörður HÆFINGARSTÖÐ Forstöðumaður UMHVERFISSVIÐ Flokkstjórar í Vinnuskóla - sumar UMHVERFISSVIÐ Yfirflokkstjóri í Vinnuskóla - sumar Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf eða beint á Ráðningavefinn https://reykjanesbaer.hcm.is/ storf/. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.

VIÐBURÐIR UMSÓKNIR Í MENNINGARSJÓÐ REYKJANESBÆJAR Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þjónustusamning og verkefnastyrk til menningartengdra verkefna á slóðinni www.reykjanesbaer.is/is/mannlif/menning/menningarstyrkir. NÆRUMST Í NÚVITUND Þriðjudaginn 31. janúar kl. 17:00 kemur Ragga nagli í Bókasafn Reykjanesbæjar og heldur fyrirlestur um hvernig við getum nærst í núvitund. Allir hjartanlega velkomnir. LÉTTUR FÖSTUDAGUR Á NESVÖLLUM Grímur Karlsson verður með báta sína föstudaginn 27. janúar kl. 14:00. Allir hjartanlega velkomnir. NOTALEG SÖGUSTUND Laugardaginn 28. janúar les Halla Karen í Bókasafni Reykjanesbæjar kl. 11:30 - 12:00. Tilboð í Ráðhúskaffi fyrir börn.

FAGLEG, TRAUST OG PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA VIÐ BJÓÐUM MEDISMART RUBY BLÓÐSYKURMÆLA, STRIMLA, BLÓÐHNÍFA OG NÁLAR FRÍTT FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ SKÍRTEINI FRÁ TR. MJÖG EINFALDUR Í NOTKUN, STÓR SKJÁR, LÉTTUR OG HANDHÆGUR - „No coding“ þarf ekki að núllstilla - Þarf mjög lítið magn til mælinga, aðeins 0,6µl

Kristmundur ætlar sér á sitt annað heimsmeistaramót í Seoul á árinu. Ólympíuleikarnir eru svo á markmiðalistanum.

SKIPTIR MÁLI AÐ HAFA TRÚ Á SJÁLFUM SÉR ●●Kristmundur stefnir á Tókýó 2020

Keflvíkingurinn Kristmundur Gíslason varð fyrstur félagsmanna til þess að keppa á heimsmeistaramóti fullorðinna í taekwondo fyrir tveimur árum. Hann ætlar sér aftur á HM í ár en hefur einnig sett stefnuna á ólympíuleikana í Tókýó árið 2020.

- Mælir blóðsykur á bilinu 1.1 - 35 mmol/L - Mæling tekur aðeins 5 sek. - Geymir 480 mælingar í minni - Hægt að tengja við tölvu Apótek Suðurnesja leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarksverði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.

Hringbraut 99 - 577 1150

Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.

Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík // sími 421 7979 // www.bilarogpartar.is

Kristmundur er 21 árs og hefur æft taekwondo frá átta ára aldri. Hann slysaðist á æfingu með vini sínum en féll strax fyrir íþróttinni sem hann hefur stundað af krafti síðan. Sérstaklega hefur hann æft vel síðustu tvö ár enda stefnir hann í hæstu hæðir. Undirbúningur fyrir HM er í fullum gangi en landsliðsþjálfari á eftir að velja liðið. „Ég er búinn að vera að æfa með það í huga að ég sé að fara,“ segir Kristmundur sem er að æfa að jafnaði 8 til 10 sinnum í viku. Hann hefur sett sér fjölda markmiða og stóri vinningurinn eru sjálfir ólympíuleikarnir þar sem hann telur raunhæft að komast inn. „Já ég sé það alveg fyrir mér. Ástæðan fyrir því að ég set mér þetta markmið núna er að það fer mikil vinna í að komast á leikana. Maður þarf að safna sér inn mikið af stigum á sterkum mótum.“ Kristmundur er duglegur í styrktarþjálfun en hann er að læra einkaþjálfun samhliða því að þjálfa hjá Keflavík í taekwondo. Á daginn vinnur hann svo í leikskóla. Mikill tími fer í að undirbúa sig undir stórmót og

nær Kristmundur ekki að vinna eins mikið og hann vildi. Hann þarf mikið að fara til útlanda til þess að keppa og það tekur sinn toll bæði tímalega og fjárhagslega. „Þetta þarf alltaf að vera í fyrsta sæti og maður er ekki mikið að fara út með félögunum um helgar eða þess háttar.“ í kringum 15 ára aldur er mikið brottfall úr íþróttum. Kristmundur var á þeim aldri ekki alveg ákveðinn í því hvort hann vildi halda áfram. „Ég hef alveg hugsað um að hætta, oftar en einu sinni örugglega. Maður hefur þó aldrei viljað það þar sem maður er búinn að leggja mikið í þetta. Ég var virkilega að hugsa um að hætta rétt áður en ég tók svarta beltið en ég var hvattur til þess að klára það og sjá svo til.“ Hann hefur ekki séð eftir þeirri ákvörðun og hefur aldrei verið einbeittari eða öflugri en einmitt núna.

Er í heimsklassa

Kristmundur er á því að hann hafi bætt sig þó nokkuð mikið á síðustu tveimur árum. „Ég tók ákvörðun um

að þetta væri eitthvað sem ég ætlaði að gera. Ég byrjaði að æfa meira og taka þessu af fullri alvöru.“ Kristmundur fór einmitt á heimsmeistaramót fyrir tveimur árum og sá þá að hann ætti í fullu tré við heimsklassa bardagamenn og væri í þeirra styrkleikaflokki. Hugarfar er stór þáttur af taekwondoíþróttinni líkt og í svo mörgum öðrum. „Það skiptir máli að hafa trú á sjálfum sér. Þú ert bara einn inn á vellinum og enginn liðsfélagi með þér. Maður þarf að vera yfirvegaður því um leið og þú byrjar að vera reiður þá missir þú einbeitinguna og ferð frá þínum áætlunum. Ég hef alveg þurft að hugsa um þetta á mínum ferli, ef maður verður of reiður eða æstur. Maður er í raun að passa upp á þetta fari ekki út í að vera slagsmál. Þeim sem þekkja ekki til sýnast þetta kannski vera slagsmál, sem þetta er auðvitað alls ekki.“ Kristmundur segir þó að árásargirni upp að vissu marki sé af hinu góða í þessari íþrótt. Spennandi verður að fylgjast með Keflvíkingnum sparkvissa á næstunni enda á hann sér háleit markmið.


fimmtudagur 26. janúar 2017

19

VÍKURFRÉTTIR

KÖRFUBOLTASNILLINGUR

ÆFIR ÁTTA SINNUM Í VIKU Keflvíkingurinn Agnes María Svansdóttir er 13 ára og stefnir hátt í körfuboltanum. Hún æfir átta sinnum í viku enda ætlar hún sér að verða nægilega góð til þess að spila í háskólaboltanum í Bandaríkjunum í framtíðinni. Aldur og félag: 13 ár og æfi með Keflavík.

Skemmtilegasta æfingin? Að spila á æfingum.

Hvað æfir þú oft í viku? 8 sinnum í viku.

Leiðinlegasta æfingin? Það er ekkert leiðinlegt.

Hvaða stöðu spilar þú? Ég er bakvörður.

Eftirlætis körfuboltamaður/ kona á Íslandi? Hörður Axel og Emelía Ósk.

Hver eru markmið þín í körfubolta? Að æfa vel og verða nógu góð til þess að komast í háskóla erlendis.

Eftirlætis körfuboltamaður/kona í NBA? Stephen Curry. Lið í NBA? Golden State Warrios.

SUNNUDAGUR 29. JANÚAR KL. 11:00 Messa og sunnudagaskóli með sameiginlegt upphaf. Messuþjónar taka á móti gestum og lesa ritningartexta, Kór Keflavíkurkirkju leiðir sálmasöng undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista, sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað og í umsjón Systu, Unnar og Helgu. Súpa og brauð í boði eftir messu. MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR KL. 12:00 Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar í umsjón presta og organista. Gæðakonur matreiða sýpu og brauð. MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR Fermingarfræðsla í KFUM og KFUK heimilinu Hátúni 36 fyrir stúlkur, Holtaskólastelpur kl. 15:45 og Heiðar- og Myllubakkaskólastelpur kl. 16:45 FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR Fermingarfræðsla í KFUM og KFUK heimilinu Hátúni 36 fyrir drengi, Holtaskólastrákar kl. 15:45 og Heiðar- og Myllubakkaskólastrákar kl. 16:45.

Verið velkomin

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

MEISTARAFLOKKUR KARLA

KEFLAVÍK - STJARNAN TM-HÖLLIN FÖSTUDAGINN 27. JANÚAR KL. 20:00 MIÐASALA Á UNDANÚRSLIT MALTBIKARS KVENNA VERÐUR Á LEIKNUM. KEFLAVÍK - HAUKAR.

GRILLAÐIR HAMBORGARAR

FYRIR LEIK

Suðurnesjamagasín Sjónvarps Víkurfrétta hefur fengið nýjan sýningartíma á fimmtudagskvöldum á Hringbraut. Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00. Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18. Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22. Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.

LÍFSHLAUPIÐ LANDSKEPPNI Í HREYFINGU HEFST 1. FEBRÚAR 2017

LÍFSHLAUP ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBANDS ÍSLANDS VERÐUR FORMLEGA HLEYPT AF STOKKUNUM 1. FEBRÚAR NÆSTKOMANDI, Í SAMSTARFI VIÐ HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG Í REYKJANESBÆ

Markmiðið með heilsueflandi samfélagi er að stuðla að bættri heilsu allra íbúa Reykjanesbæjar, þar sem áhersla er lögð á að bæta félagslegt og manngert umhverfi og draga úr tíðni lífstílstengdra sjúkdóma með margvíslegu heilsueflingarstarf

Lífshlaup ÍSÍ á tíu ára afmæli um þessar mundir en með verkefninu eru landsmenn hvattir til þess að auka daglega hreyfingu

Holtaskóli, sem var sigurvegari í Skólahreysti 2016, mun taka virkan þátt í athöfninni að þessu sinni og fer hún fram í íþróttahúsinu við Sunnubraut kl. 08.30

Við viljum hvetja allar stofnanir, skóla og einstaklinga í Reykjanesbæ til þess að skrá sig í Lífshlaup ÍSÍ, en skráningin fer fram á heimasíðu verkefnisins, lifshlaupid.is Einnig viljum við benda þeim aðilum sem vilja koma ábendingum á framfæri varðandi heilsueflingu í bæjarfélaginu á heimasíðu heilsueflandi samfélags í Reykjanesbæ, heilsueflandisamfelag.is


Mundi

Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

twitter.com/vikurfrettir

Er á leiðinni í ræktina....einmitt!

instagram.com/vikurfrettir

Könnun vf.is

Stundar þú líkamsrækt?

LOKAORÐ

Ingu Birnu Ragnarsdóttur

Já, fer reglulega

Að vera hluti af samfélagi Ég, eins og allir Íslendingar, er harmi slegin yfir atburðum síðustu daga sem hafa gert okkur öll aðeins óöruggari í okkar þjóðfélagi. Með stuttu millibili hafa tvær ungar stúlkur verið hrifnar burt í blóma lífsins. Önnur fórnarlamb hörmulegs slyss á Grindavíkurvegi, hin fólskulegrar árásar. Árásar sem má álykta að flest okkur höfum aðeins lesið um í glæpasögum. Eftir stöndum við hugsi um það þjóðfélag sem við búum í og því óöryggi sem þessar aðstæður skapa okkur öllum. En fyrst og fremst er hugur okkar allra með fjölskyldum og vinum þessara ungu stúlkna, allt er breytt og ekkert verður framar eins. Ég hef velt því fyrir mér í ljósi þessara atburða hversu mikilvægt það er að vera hluti af samfélagi. Ekki eingöngu að tilheyra hópi heldur að upplifa samkennd og samstöðu heillar þjóðar þegar eitthvað heggur í okkur. Samkvæmt skilgreiningu á orðinu samfélag þá vísar það venjulega til hóps fólks sem á með sér innbyrðis samskipti sem heild. Samfélag fólks nær yfir allt frá minnstu hópum, eins og

fjölskyldu, að stærstu einingum eins og alheimssamfélaginu. Ég hef fengið að kynnast því hversu mikill kraftur felst í því að tilheyra samfélagi, ekki bara einhverju samfélagi, heldur samfélagi sem lætur sig hlutina varða. Samfélagið mitt, stóra fjölskyldan mín og fólkið mitt í Reykjanesbæ, stóð eins og klettur á bak við fjölskyldu mína þegar við gengum í gegnum erfiðan missi undanfarin ár. Samkenndin og stuðningurinn sem ég varð vitni að reyndist okkur fjölskyldunni ómetanlegur. Ég upplifði einstakan kærleika og tilfinningu sem ekki er hægt að lýsa með orðum. Það fékk mig til þess að staldra við og hugsa: hvernig get ég gefið til baka? Þessi upplifun breytti mér. Breytti mínu viðhorfi og veitti mér aukinn lærdóm og innri sýn. Gamla tuggan sem pabbi sagði við mig reglulega frá unga aldri; „kærleikurinn er það eina sem skiptir máli Inga mín“, varð ljóslifandi og allt breyttist og ekkert varð framar eins. Þetta varð leiðarljósið mitt sem gaf mér visku og andlega sýn til að gefa til baka.

01

02

03

04

05

Hildur Jakobína Gísladóttir tók á dögunum við stöðu forstöðumanns VMST á Suðurnesjum. Hún er þessa dagana að kynnast samfélaginu á svæðinu. VF-mynd/dagnyhulda

Mikilvægt að kynnast Suðursnesjum Mest lesið á Hildur Jakobína Gísladóttir tók í byrjun árs við stöðu forstöðumanns Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum. Hildur er með grunnmenntun í sálfræði, MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið námi í stjórnendamarkþjálfun frá sama skóla. Undanfarin ár hefur hún starfað sem félagsmálastjóri á Ströndum- og í Reykhólahreppi og í Hvalfjarðarsveit. Árið 2014 stofnaði hún ráðgjafafyrirtækið Officium ráðgjöf ásamt Brynju Bragadóttur heitinni þar sem þær

Háskólabrú

Flugakademía

Davíð útskrifaðist af Háskólabrú árið 2014 en hann vinnur nú sem hönnuður hjá Porsche í Þýskalandi

Steingrímur var fyrsti nemandinn sem lauk sólóprófi frá Flugakademíu Keilis en hann er nú atvinnuflugmaður hjá SAS

sinntu meðal annars stjórnendaráðgjöf. Nýja starfið leggst vel í Hildi. „Það er alltaf gaman að koma inn í ný samfélög. Mér finnst mikilvægt að kynnast samfélaginu hérna á Suðurnesjum og ég mun vinna markvisst í því næstu daga og mánuði. Sennilega veitir maður betri ráðgjöf og þjónustu þegar maður skilur bakgrunn, samsetningu, sögu og menningu samfélagsins.“ segir Hildur sem ólst upp í Hlíðunum í Reykjavík en býr nú í Garðabæ.

vf.is í vikunni Allar þorrablótsmyndirnar úr Garði Óborganlegt myndskeið - Dragúldin síld að kæfa Gæa Heyrðu þyrlu þjóta yfir Garðskaga til vesturs Farþegar easyJet í hrakförum á Keflavíkurflugvelli

Tæknifræði

Íþróttaakademía

Thomas útskrifaðist með BS gráðu í mekatróník hátæknifræði og vinnur nú hjá Algalíf

Guðmundur lauk leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku árið 2014 og er nú eigandi Kind Adventure á Kirkjubæjarklaustri

Keilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs hóf starfsemi á Ásbrú í Reykjanesbæ 4. maí 2007 og fagnar því tíu ára afmæli á þessu ári.

Háskólabrú Hjörtur Freyr útskrifaðist úr fjarnámi Háskólabrúar 2014 og stundar nú læknisfræðinám í Slóvakíu

Samtals hafa 2.799 aðilar útskrifast úr deildum skólans á þessum tíma og í tilefni af afmælisárinu hefur skólinn safnað sögum og viðtölum við hluta þeirra nemenda og birt á heimasíðunni www.keilir.net/10ara

Flugakademía

Íþróttaakademía

Hildur Björk útskrifaðist sem atvinnuflugmaður í byrjun árs 2014 og starfar nú sem flugmaður hjá Icelandair

Rúna Björg útskrifaðist sem ÍAK einkaþjálfari 2012 og ÍAK styrktarþjálfari 2014 en hún er eigandi þjálfunarstöðvarinnar Metabolic á Akranesi

Fram að afmæli skólans í maí munu vikulega bætast við sögur og kynningar á útskrifuðum nemendum Keilis á þessari vefsíðu. Fylgist með okkur þar.

0


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook