Skip to main content

40.tbl

Page 1

Víkurfréttir

Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær

VINSÆLASTI ORKUDRYKKUR Á ÍSLANDI Í DAG!

Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001

REYKJANESBÆ

Verð áður 10.980

Gildir til 12. október.

Opið: virka daga 11-18

Heilsuform Reykjanesbæ, Krossmóum

vf.is

F IMMTUdagur inn 11. o któ be r 2 0 12 • 4 0. tölubla ð • 33. á rga ngur

Bjóðum upp á daglegar ferðir á milli Suðurnesja og Reykjavíkur

898 7806

14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011

spennandi uknattleikir

Aldnar menntastofnanir

n MENNINGIN

Á Suðurnesjum eru tvær aldnar menntastofnanir sem báðar fagna stórum áföngum um þessar mundir. Gerðaskóli í Garði hélt upp á 140 ára afmæli sitt fyrir síðustu helgi þar sem nemendum og gestum var boðið upp á kökur og drykki. Nemendur skólans höfðu dagana fyrir afmælið unnið með söguna og voru verkefni þeirra til sýnis í skólanum. Annar skóli á Suðurnesjum fagnar einnig 140 ára afmæli nk. fimmutdag. Þá verður boðið til veislu í Stóru-Vogaskóla. Eins og í Garði þá munu nemendur í Vogum vinna með söguna á starfsdögum í næstu viku. Í blaðinu í dag eru myndir úr 140 ára afmæli Gerðaskóla og þá er einnig birt umfjöllun um skólahald í Vogum sl. 140 árin. - Sjá nánar í blaðinu í dag.

Reykjanesbær ur: vf@vf.is a daga kl. 09-17

to.

kosti með gen.

endur vænn er ari

39% atvinnulausra á Suðurnesjum eru yngri en 30 ára Opið allan sólarhringinn

D

A Síða 10

n MANNLÍFIÐ

n Suðurnesjavaktin hefur gefið út áfangaskýrslu um stöðuna á Suðurnesjum:

ehf.

VEL HEPPNUÐ BÓKAGANGA

Kiddi Hjálmur á Kúbunni A Síða 8

n SPORTIÐ

„ÉG ER MIKLU BETRI EN PABBI“ A Síða 23

TM

regið hefur meira úr atvinnuleysi og höfuðborgarsvæðið með 9,5%. Þetta verkefna framundan er kortlagning með á Suðurnesjum en á öðrum land- kemur fram í nýrri skýrslu Suðurnesja- tilliti til styrkleika og helstu þarfa svæðisins, svæðum en er sem fyrr langmest á Suður- vaktarinnar sem Víkurfréttir gera ítarlega stefnumótun og gerð framkvæmdaáætlunar. nesjum. Í maí 2012 mældist atvinnuleysi skil á í blaðauka með blaðinu í dag. á svæðinu 9,4% en var 12,1% á sama Suðurnesjavaktin hefur verið starfandi frá Í áfangaskýrslunni, sem nýverið hefur verið tíma árið 2011. Á landinu öllu mælist því í byrjun janúar á síðasta ári. Nýverið var kynnt, hafa verið dregnar saman á einn stað atvinnuleysi 5,6% en var 7,4% á sama tíma gefin út áfangaskýrsla Suðurnesjavaktar- upplýsingar um stöðu Suðurnesja miðað Morgu árið 2011. Einstaklingar á Suðurnesjum innar þar sem ítarlega er farið yfir stöðu við júní í sumar. Áfangaskýrsla nverSuðurnesjaðarÞað erenháspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ dagana. Keflavík og KR eigast við í vaktarinnar undanseðilsinni kemur númútatöðru en hún á Suðurnesjum. yngri 30 ára eru 39% af þeim sem eru á málaþessa l ðeins í b úrslitum IcelandHlutfall Express-deildar og staðan í viðureign liðanna 2:2. frá stöðunni áSuASuðurnesjum rúmum Meginverkefni samstarfshópsins er að er greinir atvinnuleysisskrá. heimila íkarla van- í körfuknattleik oði á bway Fi tjum Oddaleikur verður í viðureignen liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki fjórum minni árum eftir efnahagshrunið haustið styrkja samstarf ekki einungis milli sveitarskilum er hæst á Suðurnesjum rúmlega í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0 16% íbúa á Suðurnesjum yfir 18 ára aldri félaganna heldur einnig milli ríkisstofnana, 2008. fyrirí Keflavík eftirvanskilum. tvo æsispennandi Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar og félagasamtaka með það að eiga alvarlegum Næst á háspennuleiki. eftir sveitarfélaga kvenna meðkemur sigri áSuðurland Njarðvíkurstúlkum annað Sjá nánar á síðum 11, 12, 13 og 14. markmiði að kvöld, styrkjaföstudagskvöld. svæðið í heild. VF-mynd: Meðal -HBB Suðurnesjum með 9,7%í Keflavík

Fitjum

- sjá nánar á bls. 23

NÝ T T

VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND

Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæ s. 420 5000 - Fax: 421 5946

| www.flytjandi.is | sími mi 525 5 7700 7 |

rðarbraut 13 @heklakef.is

Easy ÞvoTTaEfni

Easy MýkingarEfni


2

fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR

TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR Danskt Big-band og Léttsveit TR Sunnudaginn 14. október n.k. mun Sct. Mariæ Skoles Bigband frá Álaborg í Danmörku halda tónleika í Stapa, Hljómahöllinni ásamt Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Stjórnendur eru Gert Norgaard og Karen J. Sturlaugsson. Tónleikarnir hefjast kl. 16:00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir Skólastjóri

Safnaði fé til rannsókna á arfgengri heilablæðingu

M

aría Ósk Kjartansdóttir afhenti á dögunum Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum 80.000 kr. sem söfnuðust í kringum Ljósanótt í Reykjanesbæ. María Ósk stóð að söfnuninni ásamt Anítu Margréti frænku sinni en söfnunin var til að styrkja rannsóknir á arfgengri heilablæðingu. María er með þann sjúkdóm en hún hefur fengið þrjár heilablæðingar. Söfnunarféð verður notað til að halda áfram rannsóknum á sjúkdómnum.

HEILSU- OG FORVARNARVIKA

SÍÐUSTU SÝNINGARDAGAR Á HELGA S

Fré tti r

Suðurnesin hornrekur hjá ríkinu

A

KÆRAR ÞAKKIR

Reykjanesbær vill koma á framfæri kærum þökkum til allra þeirra sem tóku virkan þátt í Heilsu- og forvarnarviku bæjarins nú í október. Fjölmargar stofnanir og fyrirtæki tóku þátt í vikunni með einum eða öðrum hætti og ekki skorti fjölbreytnina. Ábendingar um hvað mætti betur fara eða bæta á næsta ári eru vel þegnar. Vinsamlega sendið upplýsingar eða ábendingar til Hafþórs B. Birgissonar, tómstunda- og forvarnarfulltrúa á netfangið hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is

FRÉTTIR VIKUNNAR

J María Ósk afhendir söfnunarféð.

Fimmtán ára og ölvaður í skilríkjasvindli

L

ögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um að ungur piltur væri að reyna að komast inn á skemmtistað í umdæminu á ökuskírteini annars manns. Pilturinn sem um ræðir reyndist vera fimmtán ára. Hann kvaðst hafa fengið ökuskírteinið lánað hjá manni sem hann þekkti. Pilturinn, sem var ölvaður, var færður á lögreglustöð og látinn bíða þar uns hann var sóttur. Lögregla tjáði honum að ef hann reyndi aftur að nota skilríki annars manns til að reyna að villa á sér heimildir yrði hann kærður.

ðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum ályktaði um nýliðna helgi að ríkisvaldið verði að leiðrétta það misrétti sem á sér stað í úthlutun opinberra fjármuna. Það er nánast sama hvaða málaflokkar eru skoðaðir, alls staðar eru Suðurnesin hornrekur, og þá sérstaklega í velferðar- og menntamálum. Svæðinu er gert að veita sömu þjónustu og aðrir landshlutar þrátt fyrir minna fjármagn á íbúa. Fjármagni til málefna fatlaðra er ekki deilt niður á sanngjarnan hátt um landið og sá mismunur sem var til staðar fyrir flutning málaflokksins til sveitarfélaganna er enn til staðar. Úthlutun til heilbrigðismála er mun lægri á íbúa til Suðurnesja en annarra svæða og er slíkt ólíðandi. Fjölbrautaskóli Suðurnesja fær um 90 milljónir króna minna fjárframlag á ári en sambærilegir skólar, sama á við um Keili. Tryggja ber fjármagn til að sá vaxtarsproti sem Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs er, fái vaxið og dafnað. Að auki styður

Úthlutun til heilbrigðismála er mun lægri á íbúa til Suðurnesja en annarra svæða og er slíkt ólíðandi. ríkið ekki eins vel við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum í samanburði við sambærilegar stofnanir í öðrum landshlutum og Fisktækniskóli Suðurnesja er eingöngu kominn á fjárlög fyrir árið 2013 og er framtíð hans því óviss. Eins er mikilvægt að styðja við Þekkingarsetur Suðurnesja. Mjög mikilvægt er að þegar kemur að úthlutun fjármuna í tengslum við Sóknaráætlun landshluta að þeim sé skipt jafnt milli landshluta. Suðurnesjamenn eru ekki að biðja um aukafjármuni fram yfir önnur landsvæði – aðeins að fjármunum sé úthlutað á réttlátan hátt þar sem allir landsmenn sitja við sama borð, segir í ályktun aðalfundarins.

- samband sveitarfélaga á suðurnesjum ályktar á aðalfundi:

Styður uppbyggingu álvers og iðnaðar í Helguvík A

Sýningunni um Helga S í Bíósal Duushúsa lýkur miðvikudaginn 17. október n.k. Eigendur verka eru beðnir um að koma dagana 18. og 19. og sækja verk sín. Byggðasafnið og Listasafnið þakka kærlega öllum þeim sem lánuðu verk eða tóku á annan hátt þátt í undirbúningi sýningarinnar.

tvinnuleysi er hæst á landinu á Suðurnesjum og því mikilvægt að taka atvinnumálin föstum tökum. Á Suðurnesjum eru ógrynni tækifæra bæði fyrir stór sem lítil fyrirtæki. Mikilvægt er að stjórnvöld skapi hvetjandi umgjörð fyrir atvinnuuppbyggingu og styðji þannig við atvinnusköpun í landinu, meðal annars með því að skatta- og lagaumhverfi sé stöðugt og hvetjandi. Þetta kemur fram í ályktun Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum um atvinnu- og samgöngumál. Fundurinn var haldinn um sl. helgi í Sandgerði. Hluti af stuðningi við atvinnulífið er áframhaldandi uppbygging á samgöngum á svæðinu. Brýnt er að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar og uppbyggingu Suðurstrandarvegar sem og tryggja vetrarþjónustu á þeim vegi. Ferðamannaiðnaður er vaxandi atvinnugrein og fjöldi ferðamanna eykst með hverju ári. Samhliða því er mikilvægt að tryggja öryggi þeirra sem og annarra með því að byggja upp göngu- og hjólreiðastíga meðfram Reykjanesbrautinni enda mun umferð bifreiða og hjólreiðamanna aukast næstu árin.

Aðalfundur S.S.S. telur mikilvægt að fiskihafnir komist aftur inn á samgönguáætlun enda eru þær hluti af samgöngukerfi landsins og styðja við atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Auk þess er mikilvægt að tryggja að hluti af veiðileyfagjaldinu skili sér til sveitarfélaga landsins, sérstaklega þeirra sem sjá um að þjónusta sjávarútveginn enda standa fæstar fiskihafnir landsins undir sínum rekstri. Veiðileyfagjaldið af Suðurnesjunum er um 2,2 – 2,5 milljarðar króna og því eðlilegt að hluti af því skili sér aftur til svæðisins. Ekki hefur tekist að bregðast við því áfalli er Suðurnesin urðu fyrir er varnarliðið fór árið 2006 en þar með hurfu 1100 störf af svæðinu. Því er vandi Suðurnesjamanna

dýpri og langvinnari en annarra landsvæða og krefst því kröftugri aðgerða í formi stuðnings við atvinnuuppbyggingu, nýsköpun og menntun á svæðinu. Aðalfundur SSS lýsir yfir miklum áhyggjum yfir þeim fjölda atvinnulausra sem falla munu út af atvinnuleysisskrá á næstu misserum og munu fara á framfæri sveitarfélaga ef engin önnur úrræði bjóðast. Mikilvægt er að ríkisvaldið bregðist við þessum vanda og velti honum ekki yfir á sveitarfélögin. Eina varanlega lausnin er að skapa fleiri störf. Aðalfundur S.S.S. lýsir yfir fullum stuðningi við og hefur miklar væntingar til uppbyggingar álvers og annars iðnaðar í Helguvík.


3

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012

Allir foreldrar vilja að börn þeirra geti notið þess góða sem framtíðin felur í sér. Þess vegna býður TM sérstakar barnatryggingar.

Barnatrygging TM er góð vernd sem styður við barnið til framtíðar.

• jl.is • Jónsson & Le’macks

Ánægðustu viðskiptavinir tryggingafélaga Það er stefna TM að samband okkar og viðskiptavina sé langtímasamband, byggt á trausti og gagnkvæmum ávinningi. 1

Öruggari framtíð Barnatrygging TM veitir betri vernd gegn af-leiðingum slysa og sjúkdóma en hefðbundin fjölskyldutrygging. Henni er ætlað að bæta tjón sem gæti haft áhrif á framtíðarvelferð barnsins og auðveldar foreldrum og forráðamönnum að tryggja barni sínu lífsgæði verði það fyrir alvarlegum heilsubresti.

sÍa

Af hverju tryggingar fyrir börn? 1

1

1 1

2

1

1

1

1

2

1

1

99 00 01 02 03 04 05 06 07 08 09 10 11

Barnatrygging TM > Veitir barninu víðtæka vernd gegn varanlegum afleiðingum slysa og sjúkdóma. > Greiðir dagpeninga og umönnunarbætur vegna langtímaveikinda. > Verndar barnið frá 3 mánaða til 25 ára aldurs.

Tryggingamiðstöðin Síðumúla 24 Sími 515 2000 tm@tm.is afhverju.tm.is

Á síðustu 13 árum hefur TM 11 sinnum verið með ánægðustu viðskiptavini tryggingafélaga.

Á afhverju.tm.is getur þú séð fjölda umsagna viðskiptavina sem hafa lent í tjóni og notið þjónustu TM. Ef eitthvað kemur fyrir, þá viltu vera hjá TM.


4

fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR

RITSTJÓRN RITSTJÓRNARBRÉF vf.is

Útgefandi: Afgreiðsla og ritstjórn: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: Blaðamaður: Auglýsingadeild: Umbrot og hönnun: Auglýsingagerð: Afgreiðsla: Prentvinnsla: Upplag: Dreifing: Dagleg stafræn útgáfa:

Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.

Hlúa þarf vel að mannauðnum

Dregið hefur meira úr atvinnuleysi á Suðurnesjum en á öðrum landsvæðum en er sem fyrr langmest á Suðurnesjum. Í maí 2012 mældist atvinnuleysi á svæðinu 9,4% en var 12,1% á sama tíma árið 2011. Á landinu öllu mælist atvinnuleysi 5,6% en var 7,4% á sama tíma árið 2011. Einstaklingar á Suðurnesjum yngri en 30 ára eru 39% af þeim sem eru á atvinnuleysisskrá. Hlutfall heimila í vanskilum er hæst á Suðurnesjum en rúmlega 16% íbúa á Suðurnesjum yfir 18 ára aldri eiga í alvarlegum vanskilum. Næst á eftir Suðurnesjum kemur Suðurland með 9,7% og höfuðborgarsvæðið með 9,5%. Hlutfall íbúa sem fá ráðgjöf eða fara í greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara er hæst á Suðurnesjum samanborið við landið allt. Upplýsingarnar hér að ofan koma fram í áfangaskýrslu Suðurnesjavaktarinnar sem nýverið hefur verið gefin út. Víkurfréttir gera efni skýrslunnar ítarleg skil

í sérstökum 4 síðna blaðauka sem fylgir blaðinu í dag. Suðurnesjavaktina skipar samstarfshópur, sem er fjölbreyttur hópur lykilfólks á Suðurnesjum þar á meðal allir félagsmálastjórar svæðisins, fulltrúar frá verkalýðshreyfingunni og Rauða krossinum og fulltrúar sex ríkisstofnana, fulltrúi kirkjunnar og skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Suðurnesjavaktin er óháður greiningar- og álitsgjafi sem leggur fram tillögur til stjórnvalda og hagsmunasamtaka og fylgir þeim eftir. Verkefnisstjóri Suðurnesjavaktarinnar er Lovísa Lilliendahl. Aðspurð í viðtali Víkurfrétta hvað beri helst að leggja áherslu á á Suðurnesjum m.v. niðurstöðu skýrslunnar, segir hún: „Við teljum mikilvægt að þeir einstaklingar sem eiga í hvað mestum erfiðleikum sæki sér aðstoð fyrr en síðar og fái þann stuðning sem þeir þurfa. Það skiptir svo miklu máli sérstaklega fyrir atvinnuleitendur að halda sér í virkni þar til vinnan býðst, sem

hún mun á endanum gera. Það þarf að styðja betur við atvinnustarfsemi á svæðinu og búa vel í haginn fyrir stofnun nýrra fyrirtækja. Í skýrslunni kemur einnig fram að menntunarstig einstaklinga á Suðurnesjum er lægra en annars staðar á landinu. Í nýlegri könnun Capacent Gallup kom fram að viðhorf til menntunar á Suðurnesjum er mjög jákvætt og við þurfum að vera duglegri að nýta okkur námstækifærin og það er einnig hlutverk okkar foreldranna að hvetja börnin okkar til frekara náms. Það er einnig mikilvægt að starfsfólk í velferðarþjónustu fái góðan stuðning og sé í góðum tengslum við hvert annað því það gerir vinnuna auðveldari og fólkið nýtur góðs af. Suðurnesjavaktin stóð meðal annars fyrir starfsdegi fyrir fólk í velferðarþjónustu á síðasta ári sem tókst einstaklega vel og þar kom vel í ljós hve frábært starfsfólk við höfum hérna á svæðinu við að sinna þessum málum. Þannig að við teljum að það þurfi að hlúa vel að mannauðnum á svæðinu á meðan við göngum í gegnum þetta erfiða tímabil“.

Lífi

ð

Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

hilmar bragi Bárðarson

Mikilvægi samvinnu Sigrún María kom færandi hendi

S

igrún María á deildinni Múla á leikskólanum Laut í Grindavík kom með kartöflur, gulrætur og rófur og færði leikskólanum að gjöf á dögunum. Uppskeran var svo mikil hjá fjölskyldu hennar að hún ákvað að láta Laut njóta góðs af. Sigrún María færði henni Beggu kokki krásirnar sem eldaði dýrindis máltíð fyrir krakkana. Á meðfylgjandi mynd er Sigrún María með grænmetið góða.

Með 29 ketti á heimilinu

L

ögreglan á Suðurnesjum heimsótti nýverið heimili í umdæminu í kjölfar þess að kvartanir höfðu borist vegna hunda- og kattahalds þar og óþrifnaðar sem af dýrahaldinu hlytist. Þegar inn var komið reyndist þar fyrir fjöldi katta, tveir hundar og þrír páfagaukar í búri. Gaukarnir höfðu eitt herbergi út af fyrir sig. Lögreglumaður reyndi að kasta tölu á kettina, en þegar hann var kominn upp í 22 stykki bættust fleiri kettir við og blönduðust við þá ketti sem búið var að telja. Húsráðandi kvaðst vera með 29 ketti, fimmtán sem hann ætti sjálfur og aðra fjórtán sem væru í pössun. Innan mánaðar yrði kattahaldið komið í annað og umfangsminna horf, pössunarkettirnir farnir og heimiliskettirnir yrðu ekki fleiri en sjö talsins. Lögregla hefur tilkynnt málið til Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

Í störfum okkar hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS) fengum við haustið 2009 tækifæri til að taka þátt í tveggja ára Evrópuverkefni sem styrkt var af Leonardo menntaáætlun Evrópusambandsins. Forsagan að því var sú að FS hafði fengið Guðrúnu Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Intercultural Iceland (ICI) og sérfræðing í fjölmenningarlegri kennslu, til að halda erindi og síðan námskeið um fjölmenningarlegar kennsluaðferðir fyrir kennara skólans. Guðrún hefur haldið slík námskeið í mörgum grunnskólum víða um land og fyrir erlenda kennara sem koma hingað gagngert til að sækja námskeiðin, en FS var fyrsti framhaldsskólinn á landinu sem bauð sínum kennurum upp á það. Í kjölfar samstarfsins í kringum námskeiðið bauð Guðrún tveimur fulltrúum skólans að vera með í verkefninu en ICI var einn af þátttakendunum. Í verkefninu tóku þátt auk Íslands skólar og menntastofnanir í Belgíu, Finnlandi, Frakklandi, Skotlandi og Tyrklandi. Brottfall nemenda úr námi er vandamál í öllum þessum löndum sem og annars staðar í heiminum, ekki síst hér á Íslandi. Markmið verkefnisins var að finna leiðir til að draga úr brottfalli, með áherslu á starfsnám. Á því tveggja ára tímabili sem verkefnið stóð yfir heimsóttu þátttakendur skóla og tengdar stofnanir í löndunum sex þar sem þátttakendur miðluðu fjölbreyttum leiðum til að draga úr brottfalli nemenda. Margar áhugaverðar leiðir voru kynntar. Afrakstur verkefnisins var í formi heimasíðu (http://serve.wikidot. com/) þar sem kennarar, náms- og starfsráð-

gjafar, skólastjórnendur og jafnvel foreldrar geta fengið leiðbeiningar við að greina nemendur í brottfallshættu, lista yfir mögulegar ástæður brottfallsins og hugmyndir að lausnum. Það sem vakti helst athygli undirritaðra í þeim skólaheimsóknum sem fylgdu verkefninu voru námsleiðir sem settar höfðu verið upp fyrir einstaklinga sem hætt höfðu í skóla en sneru aftur einhverju síðar, ýmist eftir veru á vinnumarkaði eða í atvinnuleit. Í Frakklandi og Belgíu er verið að gera mjög áhugaverða hluti fyrir unglinga í brottfallshættu. Áhersla er lögð á sjálfsstyrkingu, verklega kennslu, listir og útiveru sem dæmi til að koma til móts við nemendur þar sem þeir eru staddir og hjálpa þeim að efla sjálfstraust, byggja sig upp og ná árangri. Í Bolu í Tyrklandi er boðið upp á verknám fyrir einstaklinga á öllum aldri sem starfa við einhvers konar iðn en hafa hætt í skóla og því ekki lokið neinu prófi. Námið er stundað samhliða vinnu og á 5 árum geta nemendur lokið iðnmeistaraprófi. Í tengslum við framhaldsskólann Winnova í Finnlandi er úrræði í boði fyrir atvinnuleitendur sem felur í sér verknám og ráðgjöf með mikilli persónulegri aðstoð í nokkurs konar vinnusmiðjum. Þetta hefur reynst góður stökkpallur frá því að vera atvinnulaus til lengri tíma og að fara aftur út á vinnumarkaðinn eða í nám. Í framhaldsskóla í Arbroath í Skotlandi var lögð áhersla á að aðbúnaður nemenda væri góður og að nemendum liði vel í skólanum. Jákvæð skilaboð blöstu við nemendum á veggjum og borðum skólans í stað boða og banna. Einnig var áhugavert að Skotarnir notuðu orðin student retention í jákvæðu merkingunni að halda í nemendur, í stað orðsins brottfall sem við erum vön hér á landi og venju-

lega er notað í neikvæðri merkingu. Áherslan er lögð á að halda sem flestum nemendum í skóla og að hafa hlutfall þeirra sem halda áfram og ljúka námi sem hæst, í stað þess að tala um fjölda þeirra sem hætta. Markmiðið er alltaf að halda sem flestum nemendum í námi. Í Fjölbrautaskóla Suðurnesja er sífellt verið að leita leiða til að koma til móts við alla nemendur með námi við hæfi og að draga úr brottfalli þeirra. Eitt af því sem við tókum með okkur úr heimsókninni frá Skotlandi var notkun Facebook við kennslu. Síðastliðið haust fengum við kennara frá Skotlandi sem hefur verið að nota Facebook til að halda kynningu fyrir kennara FS auk þess sem öllum grunnskólakennurum á Suðurnesjum var boðið að koma. Nú hafa nokkrir kennarar í FS notað Facebook í sinni kennslu í skemmri eða lengri tíma. Fyrstu vísbendingar gefa til kynna að árangurinn sé góður. Sem dæmi hafa samskipti batnað og utanumhald um nemendur aukist með notkun Facebook, sérstaklega í krefjandi hópum. Samvinna og tengsl skóla hér á landi við menntastofnanir erlendis hefur miðað við okkar reynslu aðeins jákvæð áhrif á skólastarfið. Víðsýni bæði starfsfólks og nemenda eykst, nýjar hugmyndir kvikna og nýjar aðferðir lærast. Allt stuðlar þetta að fjölbreyttari kennsluháttum og skemmtilegri skóla. Guðmundur Grétar Karlsson, kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja Hanna María Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri um eflingu menntunar á Suðurnesjum


5

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012

Omnis og Sjónvarpsmiðstöðin færa þér í sameiningu betra verð og úrval á sjónvarpstækjum. GLÆSILEG HÖNNUN FRÁ JAKOB JENSEN Toshiba 47” FHD 3D LED Glæsilega hannað LED sjónvarp frá Philips á ótrúlegu verði. Full HD 1920x1080 upplausn, Jakob Jensen Design, Intelligent 3D tækni, 7.000.000:1 skerpuhlutfall, innbyggður gervihnattamóttakari, sjálfvirkur birtu skynjari fyrir baklýsingu, 4x HDMI, LAN, 2x USB.

Omnisverð

199.900

Omnisverð

Tilboðsverð

49.900

Tilboðsverð

64.900

Fullt verð: 69.900

159.900 Fullt verð: 189.900

Finlux 22” LCD - 12v

Finlux 26” HD LCD

Panasonic 42” Full HD LED

22” LCD sjónvarp frá Finlux sem mögulegt er að tengja við 12v rafmagn. HD upplausn og innbyggður stafrænn móttakari. Skerpuhlutfall 8.000:1, birtustig 300 cd/m2. Tengi: HDMI, scart, USB, heyrnatól

Flott 26” sjónvarpstæki frá Finlux með HD upplausn. 4.000:1 skerpuhlutföll, 500 cd/m2 birtustig og 5 ms svartími. Innbyggður stafrænn móttakari. Nicam Stereo hljóðkerfi. Tengi: 2 x HDMI, scart, heyrnatól

Stórglæsilegt 42” Full HD 1080p LED sjónvarp frá Panasonic. IPS Alpha skjár, Vreal LIVE myndtækni, 150Hz Back Light Scanning, innbyggður háskerpu stafrænn móttakari. Tengi: 4 x HDMI, 2 x USB, scart, heyrnatól og optical út.

ÞÚ FÆRÐ MEIRA HJÁ OMNIS REYKJANESBÆR Tjarnargötu 7

AKRANES Dalbraut 1

BORGARNES Borgarbraut 61

444-9900 www.omnis.is


6 markhonnun.is

fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR

nautaLundir Danskar

Kræsingar & kostakjör

3.379 áður 3.975 kr/kg

Danskir Dagar GrísabóGur hrinGskorinn

ofnsteik Með dönskuM bLæ

nautasteik

ttur

29% afsLá

496 áður 698 kr/kg

kjúkLinGaborGarar

240 G x8

498 kr/pk

MjaðMasteik

1.998 kr/kg

kaLkúnastriMLar

1.499 áður 1.898 kr/kg

1.998 áður 2.498 kr/kg

Gæða Marsipanterta

998 kr/stk

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

b

ú


7

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012

kjúkLinGabrinGur Danskar - 900 g

1.390 áður 1.598 kr/pk

halDa áfram í nettó! LaMbahryGGur bayonneskinka fERSkuR Af

svínarif

svínapurusteik

úR BóG nýSláTRuðu

BEinlAuS flESkSTEik

ur

tt 45% afsLá

987 áður 1.495 kr/kg

494 áður 898 kr/kg

joLy CoLa 33 CL

dir

allar Tegun

198 kr/pk

89 kr/stk

34% afsLáttur

989 áður 1.498 kr/kg

ávaxtasaLat 175 g piparrótarsaLat 150 g rússnesktsaLat 175 g karrísaLat 175 g eGGjasaLat 175 g

298 kr/stk

Tilboðin gilda 11. - 14 . okt. Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


8

fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR

MANNLÍFIÐ • UNGA FÓLKIÐ FS-INGUR VIKUNNAR

Stefnir alla leið á toppinn í framtíðinni Myndir af Facebooksíðu Memphisfafíunnar.

ara Lind Ingvarsdóttir er 17 ára S Njarðvíkurmær sem

stundar nám á Náttúrufræðibraut í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sara segir það fínt að vera fátækur námsmaður en hún er ekki í vinnu samhliða náminu. Aðspurð að því hver sé líklegastur FS-inga til að hlotnast frægð þá er svarið einfalt, jú auðvitað hún sjálf en hún stefnir alla leið á toppinn í framtíðinni. Af hverju valdir þú FS? Af því að hann er staðsettur í mínum heimabæ og ég nenni ekki að keyra á milli. Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Það er svaka fínt. Eða böllin eru alla vega svaka fín, get ekki sagt að ég mæti á mikið fleiri viðburði. Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Á toppinn auðvitað. Ertu að vinna með skóla? Heldur betur ekki. Stundarðu íþróttir eða ert í öðrum tómstundum? Ég á það til að fara og rífa allhressilega í lóðin. Hvað borðar þú í morgunmat? Cheerios og banana að sjálfsögðu, eða ofnbakaðan hafragraut, aðeins snillingar vita hvað það er. Mjög gott samt.

Kiddi Hjálmur á Kúbunni Þ

að hefur verið mikið að gera hjá Guðmundi Kristni Jónssyni, betur þekktum sem Kidda í Hjálmum, að undanförnu. Kiddi er orðinn einn afkastamesti upptökustjóri landsins auk þess að spila með Hjálmum, Baggalúti o.fl. sveitum. Hann kemur einnig að sjónvarpsþættinum Hljómskálinn sem sýndur hefur verið á RÚV við góðan orðstír. Kiddi var fyrir skömmu á Kúbu þar sem hann tók upp nýja plötu með Sigurði Guðmundssyni og Memphismafíunni. „Við Siggi fórum til Kúbu til að taka upp plötu með Memphismafíunni og þetta var mjög eftirminnileg ferð. Við höfum verið að fara á eyjur í nágrenninu, t.d. tókum við í Hjálmum upp plötu á Jamaíka. Við urðum eiginlega að prófa að taka upp plötu á Kúbu. Núna erum við kannski

búnir að loka hringnum. Ég er að hljóðblanda plötuna um þessar mundir og hún kemur út fyrir jól. Við fengum marga hæfileikaríka tónlistarmenn frá Kúbu til að spila inn á plötuna og það gætir áhrifa frá Kúbu. Þetta lofar góðu,“ segir Kiddi í samtali við Víkurfréttir.

Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur? Ég sjálf, ef ég á að vera hreinskilin. Hvað fær þig til að hlæja? Alla vega ekki Thelma Hrund Tryggvadóttir. EFTIRLÆTIS... Sjónvarpsþættir Friends er í miklu uppáhaldi.

Hefur mikla trú á Of Monsters and Men Hljómsveitin Of Monsters and Men, sem að hluta er skipuð þeim Nönnu Bryndísi Hilmarsdóttur og Brynjari Leifssyni frá Suðurnesjum, þekkja flestir Íslendingar

Vefsíður Ætli það sé ekki bara facebook. Skyndibiti Ég er ekki mikil skyndibitamanneskja en Subway líklegast. Kennari Einar Trausti er mikill meistari. Fag í skólanum Stærðfræðin er fallegt fag. Tónlistin Ég ætla ekki einu sinni að reyna að svara þessari spurningu, ég er alltof mikil alæta á tónlist.

Félagslífið í myndum Óskum eftir að fá sendar ljósmyndir úr félagslífi skólanna á Suðurnesjum til birtingar á vf.is og í Víkurfréttum.

My

nd

ir!

Sendið myndir á vf@vf.is

Uppgötvaði nýjustu tónlistarstjörnu landsins Kiddi hefur að undanförnu unnið mjög náið með tónlistarmanninum unga, Ásgeiri Trausta, sem hefur slegið í gegn hér á landi á undanförnum mánuðum. Ásgeir Trausti gaf nýverið út plötuna Dýrð í Dauðaþögn sem hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og slegið í gegn hjá íslenskum tónlistarunnendum. Kiddi, sem stjórnaði upptökum á plötunni, fékk demó frá Ásgeiri, sem er hálfbróðir Þorsteins Einarssonar, söngvara í Hjálmum og heillaðist um leið. „Ég er ekki vanur að hlusta mikið á demó en úr því að þetta var bróðir hans Steina, sem er æskuvinur minn, þá gat ég ekki hafnað honum. Ég hlustaði á demóið og fann strax að það var mikið spunnið í þennan dreng. Við drifum okkur svo í kjölfarið í upptökur. Platan hefur orðið mjög vinsæl en það er fyrst og fremst vegna þess hve góð hún er. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt ferli og gaman að taka þátt í þessu ævintýri með Ásgeiri. Þetta minnir mann svolítið á það þegar við í Hjálmum vorum að slá í gegn þó ég sjái þetta kannski örlítið með öðrum augum núna,“ segir Kiddi.

n Auður Erla Guðmundsdóttir // UNG

Umsjón: Páll orri pálsson • pop@vf.is

Ákveðin, ekki með nógu góðan orðaforða og listræn A

uður Erla Guðmundsdóttir er grunnskólanemi í 8.VIS í Holtaskóla. Hún væri til í að vera arkitekt eða lögfræðingur þegar hún verður eldri. Hún segir að titillinn á laginu Never Grow Up lýsi henni best.

Uppáhalds tónlistarmaður/hljómsveit?

One Direction & Taylor Swift eru í uppáhaldi.

Alveg klárlega Liam Payne í One Direction.

Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu?

Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?

Fer á æfingu eða er með vinum. Fótbolti, körfubolti & tómstundir.

Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag?

Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það?

Hvað gerirðu eftir skóla?

Hver eru áhugamál þín?

Steik með bakaðri kartöflu er best.

Geta haldið andanum eins lengi og ég vildi. Uppáhalds fag í skólanum?

Enskan er skemmtilegust. En leiðinlegasta?

Íslenska er leiðinlegasta fagið.

Hver er uppáhalds maturinn þinn?

Hvað er draumastarfið?

Lögræðingur eða arkitekt væri mjög gaman. Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt?

Katy Perry fær þann heiður.

Allt sem maður getur ekki gert þegar maður er sýnilegur.

Ákveðin, ekki með nógu góðan orðaforða, listræn. Hvað er skemmtilegast við Holtaskóla?

Fólkið og krakkarnir sem eru þar.

Hvaða lag myndi lýsa þér best?

Never Grow Up - Taylor Swift lýsir mér lang best.


9

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012

PISTILL heilsuhornið

Fimm ilmkjarnaolíur sem gott er að hafa við höndina og hefur sveitin orðið fræg um nánast allan heim á örskömmum tíma. Víkurfréttir fékk Kidda til að meta uppgang sveitarinnar og hvort Of Monsters and Men sé orðin heimsfræg? „Það er ekki spurning að sveitin er orðin heimsfræg. Það er alveg sama á hvaða tónlistarhátíð ég fer – þau eru þar að spila. Lögin þeirra eru svo spiluð í útvarpi eða auglýsingum um allan heim. Þessi sveit er að verða fræg á allt annan hátt en t.d. Björk og Sigur Rós. Þau njóta mun meiri vinsælda meðal almennra tónlistarunnenda og slógu í gegn hjá háskólasenunni. Það sem er athyglisvert við vinsældir þess-

arar sveitar er að hún verður fyrst vinsæl í Bandaríkjunum og slær svo einnig í gegn í Evrópu. Það er ekki sjálfgefið. Fyrsta árið á tónleikaferðalagi er alltaf mjög erfitt og reynir á. Þau eru hins vegar með frábæran umboðsmann og það er hugsað vel um þau þannig að það auðveldar þetta aðeins. Flestar sveitir enda í mínus fjárhagslega við að fara á fyrsta tónleikaferðalagið og vita yfirleitt ekki hvaðan næsta máltíð kemur en ég er nokkuð viss um að þetta er aðeins þægilegra hjá þeim. Ég hef mikla trú á þessari hljómsveit og spái henni miklum frama.“

Starfsemi URKÍ-S mun hefjast 17. október 2012

Í boði verður dagskrá fyrir börn á aldrinum 10-16 ára og er skipt í 2 hópa. 5. - 7. bekkur (2000-2002) miðvikud. kl. 16:30 - 18:30 8. - 10. bekkur (1997-1999) miðvikud. kl. 19:00 - 21:00

eru mjög öflugt form af jurtalyfjum Ioglmkjarnaolíur hafa yfirleitt mjög sterka

og mikla virkni. Þessar olíur myndast þegar vissir hlutar jurtarinnar eru eimaðir og útkoman er fjölvirkar náttúrulegar olíur sem geta gagnast okkur á ýmsan hátt og margar þessar olíur hafa afar öfluga örverudrepandi virkni. Hér koma algengustu ilmkjarnaolíurnar, áhrif þeirra og notkun.

Lavender. Mjög algeng olía sem hefur slakandi og róandi áhrif. Hún er einnig mjög græðandi og sótthreinsandi og er gjarnan notuð í krem og smyrsli. Hægt að nota m.a. við skordýrabiti, bólum og smávægilegum bruna í húð.

Ásdís grasalæknir skrifar

Peppermint. Piparmyntuolían er oft notuð við höfuðverk og mígreni og þá settir nokkrir dropar af henni og nuddað sitthvoru megin á gagnaugun. Olían er líka seld í hylkjum og hægt að nota til inntöku gegn ristilkrampa en hún mjög krampastillandi og róandi fyrir magann. Það er líka hægt að setja nokkra dropa í grunnolíu og nudda á bólgur og verki útvortis.

Eucalyptus. Þessi olía hentar einstaklega vel þegar um kvef og ennis- og kinnholusýkingar er að ræða og þá er hægt að anda henni að sér reglulega eða hún sett í smyrsli sem er borið á bringuna. Hún er slímlosandi og bakteríudrepandi. Lemon. Sítrónuolían er talin hafa upplífgandi og frískandi áhrif á hugann og jafnvel jákvæð áhrif á einbeitingu. Hún er mjög sótthreinsandi og gjarnan notuð til að sótthreinsa sár og skrámur. Tee tree. Þessi olía er mikið notuð í húðvörur gegn bólum og fyrir feita húð en hún dregur úr framleiðslu á fitu í fitukirtlum húðarinnar. Hún er líka alhliða sótthreinsandi og hefur breiða virkni gegn mörgum örverum. Hafa ber í huga að þessar olíur eru í flestum tilfellum ekki ætlaðar til inntöku og í sumum tilfellum geta þær verið of sterkar á húðina útvortis ef notað er of mikið magn í einu. Það getur verið gott að þynna ilmkjarnaolíur út og setja nokkra dropa í grunnolíur eins og möndluolíu eða ólífuolíu. Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is

Rauði kross Íslands Suðurnesjadeild

VILT ÞÚ STARFA... ... Í EINU AF UNDRUM VERALDAR ?

Bláa Lónið leitar að orkumiklum og jákvæðum einstaklingum í fjölbreytt störf. Kynntu þér störfin sem í boði eru á heimasíðu okkar www.bluelagoon.is/Um-fyrirtaekid/Atvinna/ Nánari upplýsingar veitir Hulda Gísladóttir, mannauðsstjóri, í netfanginu hulda@bluelagoon.is eða í síma 420 8838 Bláa Lónið er tóbakslaus vinnustaður og þar starfa að jafnaði 200-250 starfsmenn Bláa Lónið hefur margsinnis verið valinn einn besti spa staðurinn á heimsvísu og fékk nýverið nafnbótina sem eitt af 25 undrum veraldar að mati National Geographic


10

fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR

i ng

MENNING OG MANNLÍF

Me nn

Vel heppnuð bókmenntaganga R

Viljayfirlýsing um opnun sýningar um líf og feril Guðbergs G rindavíkurbær og Guðbergur Bergsson rithöfundur, sem verður áttræður 16. október nk., skrifuðu sl. laugardag undir viljayfirlýsingu um að opnuð verði sýning um líf og feril Guðbergs í Kvikunni, auðlindaog menningarhúsi Grindavíkur. Stefnt er að opnun sýningarinnar í mars 2013 í tengslum við menningarviku Grindvíkinga. Jafnframt er áhugi beggja aðila á því að í nýju bókasafni Grindavíkur sem opnar í ársbyrjun 2014 verði hægt að nálgast öll verk Guðbergs og þar verði verkum hans jafnframt gerð góð skil.

eykjanesbær er bara nokkuð ríkur af bókmenntum. Það kom í ljós þegar starfsfólk Bókasafns Reykjanesbæjar bauð upp á bókmenntagöngu í heilsu- og forvarnarviku. Af nógu var að taka, þannig að göngurnar verða án efa fleiri í framtíðinni. Góður hópur fólks var mættur á Bókasafnið fyrir kl. 11:00 sl. laugardag til að taka þátt í fyrstu bókmenntagöngu safnsins. Það var spenningur í lofti, ekki síst hjá starfsfólki sem var að bjóða upp

Við athöfnina las Guðbergur þrjár smásögur sínar sem hafa ekki verið birtar eða lesnar opinberlega áður. Þá bauðst hann til að láta sýningunni í té hluta úr listaverkasafni sínu. Hinrik bróðir hans sagði frá uppvaxtarárum þeirra bræðra í Grindavík og Jóhann Páll Valdimarsson frá Forlaginu sem gefur út bækur Guðbergs sagði frá samskiptum sínum við skáldið. Bryndís Gunnlaugsdóttir forseti bæjarstjórnar færði Guðbergi gjöf frá bænum sem var listaverk eftir Önnu Sigríði Sigurjónsdóttur.

á bókmenntagöngu í fyrsta sinn. En gangan tókst vel og marga óraði ekki fyrir því hversu mikið við eigum af skemmtilegum bókmenntatextum. Auk þess að koma við á gömlum bókasafnsslóðum, við Sólvallargötu, Skólaveg og Mánagötu var lesið bernskubrot úr ævisögum Rúnars Júlíussonar, Gunnars Eyjólfssonar og Árna Bergmann, lesið ljóð eftir Kristin Reyr, brot úr Diddu og dauða kettinum eftir Kikku, upphaf Ódáðahrauns eftir Stefán Mána og sagt

frá tilurð þess að skessa Herdísar Egilsdóttur fékk bústað í Gróf. Þegar Lestrarmenning í Reykjanesbæ var sett árið 2003 sagði Sigurður Þór Salvarsson blaðamaður að nú væri Reykjanesbær ekki bara þekktur fyrir bolta og bítlatónlist, heldur líka bækur. Það er ástæða til að rifja þau orð upp hér. Að lokum má geta þess að Njarðvíkingurinn Elías Snæland Jónsson var að senda frá sér nýja sögu þar sem Reykjanesbær er sögusviðið. Hún heitir Ævintýri á Ljósanótt.

Á söguslóðum Diddu og dauða kattarins eftir Kikku. Stefanía Gunnarsdóttir las.

Svanhildur Eiríksdóttir setti fyrstu bókmenntagönguna og lét svo göngustjórn í hendur Rannveigar Garðarsdóttur göngukonu.

Valgerður Guðmundsdóttir menningarfulltrúi las ljóðið Keflavík eftir Kristin Reyr, við Keflavíkurmerki Helga S.

n Danskt Big-band og Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar:

Halda tónleika í Stapa S

unnudaginn 14. október nk. kl. 16.00 mun Stórsveit Sct. Mariae Skole í Álaborg í Danmörku, Sct. Mariae Skoles Bigband, halda tónleika í Stapa ásamt Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

LEIKSKÓLAKENNARA/LEIÐBEINENDUR VANTAR TIL STARFA Í GEFNARBORG Leikskólinn Gefnarborg er einkarekinn fjögurra deilda leikskóli í Garði. Í leikskólanum er unnið metnaðarfullt starf þar sem mikil áhersla er á virðingu og jákvæð samskipti. Í starfinu er stuðst við kenningar Howard Gardners og sérstök áhersla á fjölmenningu og umhverfismennt. Í starfsmannahópinn vantar starfsmenn á deild. Æskilegar menntunar- og hæfniskröfur eru: Háskólagráða í leikskólakennarafræðum eða önnur uppeldismenntun Góð færni í samskiptum Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Ef ekki fást starfsmenn með uppeldismenntun verða ráðnir leiðbeinendur. Við hvetjum karlmenn jafnt sem kvenmenn til að sækja um. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 16. október 2012. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu leikskólans http://www.leikskolinn.is/gefnarborg Nánari upplýsingar veita leikskólastjóri og rekstraraðili í síma 422- 7166

Danska stórsveitin verður í heimsókn hér á landi dagana 12. til 19. október og auk tónleikanna í Stapa, mun Sct. Mariae Skoles Bigband leika við messu í Keflavíkurkirkju nk. sunnudag kl. 11. Sveitin leikur einnig á höfuðborgarsvæðinu. Hljóðfæraleikararnir í Sct. Mariae Skoles Bigband eru 30 talsins á aldrinum 13 – 17 ára og það eru hljóðfærakennarar frá Listaskóla Álaborgar, Aalborg Kultur Skole, sem kenna nemendunum. Stórsveitin leikur tónlist í ýmsum stíltegundum, sveiflu, rokk og popp, en það er athyglisvert að sveitin hefur einnig kirkjulega tónlist á efnisskrá sinni og nýtir hana þegar það á við. Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar er ein af fremstu stórsveitum landsins og hefur borið hróður Reykjanesbæjar og Tónlistarskólans síns víða, bæði innan lands sem utan.

Á tónleikunum í Stapa á sunnudaginn kemur, munu Sct. Mariae Skoles Bigband og Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leika sitt hvora efnisskrána, en síðan munu sveitirnar leika saman nokkur lög. Það er gaman að geta þess að þær munu frumflytja nýtt tónverk; verk fyrir 2 big-bönd, sem var samið sérstaklega fyrir þessar stórsveitir af danska tónskáldinu Jesper Riis. Verkið byggir á íslenskum og dönskum lögum sem sett eru fram í eins konar syrpu. Verkið var samið með styrk frá Menningarsjóði Norðurlandaráðs. Stjórnendur stórsveitanna eru Gert Norgaard, tónlistarkennari við Sct. Mariae Skole og Karen J. Sturlaugsson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Sjá nánar á vf.is

Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á Grikklandi.


11

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012

BLAÐAUKI UM SUÐURNESJAVAKTINA • fimmtudagurinn 11. október 2012

vf.is

Áfangaskýrsla Suðurnesjavaktarinnar komin út Velferðarvaktin var sett á laggirnar í kjölfar efnahagshrunsins en hlutverk hennar er að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu með markvissum hætti og gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna. Velferðarvaktin er óháður álitsgjafi sem leggur fram tillögur til stjórnvalda og hagsmunaaðila. Suðurnesjavaktin hefur verið starfandi frá því í byrjun janúar á síðasta ári. Nýverið var gefin út áfangaskýrsla Suðurnesjavaktarinnar þar sem ítarlega er farið yfir stöðu mála á Suðurnesjum. Suðurnesjavaktina skipar samstarfshópur, sem er fjölbreyttur hópur lykilfólks á Suðurnesjum þar á meðal allir félagsmálastjórar svæðisins, fulltrúar frá verkalýðshreyfingunni og Rauða krossinum og fulltrúar sex ríkisstofnana, fulltrúi kirkjunnar og skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Suðurnesjavaktin er óháður greiningar- og álitsgjafi sem leggur fram tillögur til stjórnvalda og hagsmunasamtaka og fylgir þeim eftir. Verkefnisstjóri Suðurnesjavaktarinnar er Lovísa Lilliendahl. Meginverkefni samstarfshópsins er að styrkja samstarf ekki einungis milli sveitarfélaganna heldur einnig milli ríkisstofnana, sveitarfélaga og félagasamtaka með það að markmiði að styrkja svæðið í heild. Meðal verkefna framundan er kortlagning með tilliti til styrkleika og helstu þarfa svæðisins, stefnumótun og gerð framkvæmdaáætlunar. Í áfangaskýrslunni, sem nýverið hefur verið kynnt, hafa verið dregnar saman á einn stað upplýsingar um stöðu Suðurnesja miðað við júní í sumar. Áfangaskýrsla Suðurnesjavaktarinnar kemur nú út öðru sinni en hún greinir frá stöðunni á Suðurnesjum rúmum fjórum árum eftir efnahagshrunið haustið 2008.

Svona er staðan Á SUÐURNESJUM

n Í skýrslu Suðurnesjavaktarinnar kemur fram að staðan á svæðinu er ekki eins og best verður á kosið, sérstaklega þegar kemur að fjármálum heimilanna. Mörg heimili eiga í fjárhagserfiðleikum og vanskil eru töluvert hærri meðal íbúa á Suðurnesjum samanborið við aðra landshluta. Dregið hefur meira úr atvinnuleysi á Suðurnesjum en á öðrum landsvæðum en er sem fyrr langmest á Suðurnesjum. Í maí 2012 mældist atvinnuleysi á svæðinu 9,4% en var 12,1% á sama tíma árið 2011. Á landinu öllu mælist atvinnuleysi 5,6% en var 7,4% á sama tíma árið 2011. Einstaklingar á Suðurnesjum yngri en 30 ára eru 39% af þeim sem eru á atvinnuleysisskrá. Hlutfall heimila í vanskilum er hæst á Suðurnesjum en rúmlega 16% íbúa á Suðurnesjum

yfir 18 ára aldri eiga í alvarlegum vanskilum. Næst á eftir Suðurnesjum kemur Suðurland með 9,7% og höfuðborgarsvæðið með 9,5%. Hlutfall íbúa sem fá ráðgjöf eða fara í greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara er hæst á Suðurnesjum samanborið við landið allt. Eignir Íbúðalánasjóðs í júní 2012 eru flestar á Suðurnesjum eða samtals 579. Næstflestar eignir sjóðsins eru á höfuðborgarsvæðinu eða 352 talsins. Þá segir í áfangaskýslunni að hlutfall íbúa á

Suðurnesjum með háskólamenntun er 17,7% en landsmeðaltal er 33%. Mikil aukning hefur orðið á málum í forvarnarog meðferðarteymi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Hlutfall öryrkja er hæst á Suðurnesjum eða 9,8% á meðan landsmeðaltal er 7,4%. Þá segir að mikil fjölgun hefur orðið á sprotafyrirtækjum á Ásbrú en í frumkvöðlasetrinu Eldey eru nú starfrækt 18 sprotafyrirtæki.

Byrjaði að halla undan fæti þegar varnarliðið fór Í aðdraganda efnahagshrunsins stóðu Suðurnesin nokkuð verr að vígi samanborið við aðra landshluta en segja má að í framhaldi af brotthvarfi varnarliðsins árið 2006 hafi byrjað að halla undan fæti á svæðinu. Efnahagshrunið hefur þó ekki eingöngu haft slæm áhrif á samfélagið á Suðurnesjum eins og margir kunna að telja. Aðgerðir á vegum ríkisins hafa leitt til þess að samstarf milli aðila í velferðarþjónustu á svæðinu öllu hefur styrkst verulega með tilkomu Suðurnesjavaktarinnar. Með tilkomu atvinnuþróunarfélagsins Heklunnar blómstrar frumkvöðlastarfsemi á Ásbrúarsvæðinu en Heklan styður við atvinnuþróun á Suðurnesjum með fjölbreyttum hætti og eru í dag um 18 sprotafyrirtæki starfandi á svæðinu. Svæðisbundið verkefni á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem miðar að því að efla menntun á Suðurnesjum hefur einnig gengið vel. Síðast en ekki síst er vert að minna á öll þau öflugu virkni- og starfsendurhæfingarúrræði sem standa einstaklingum til boða á svæðinu. Þetta eru styrkleikar sem vilja því miður oft gleymast í umræðunni um afleiðingar efnahagshrunsins.


12

fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR

SUÐURNESJAVAKTIN

Styrkleikar Suðurnesja n Sveitarfélögin á Suðurnesjum vinna flest eftir yfirlýstum stefnum varðandi fjölskyldumál, forvarnir, fjölmenningu, skólamál og jafnréttismál.

Hvað hefur verið gert til að bregðast við ástandinu? Í skýrslunni segir að fyrir tilstuðlan stjórnvalda hefur eftirfarandi verkefnum verið ýtt úr vör: Formlegu samstarfi sveitarfélaga á Suðurnesjum á sviði velferðarmála. Menntaverkefni á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem miðar að því að efla menntun á Suðurnesjum. Stofnað hefur verið atvinnuþróunarfélag sem vinnur að fjölbreyttum verkefnum á sviði atvinnu- og byggðaþróunar auk verkefna á sviði nýsköpunar. Umboðsmaður skuldara opnaði útibú á svæðinu. Sýslumaðurinn í Keflavík hlaut styrk til þess að gera rannsókn á orsökum nauðungarsala á Suðurnesjum. Þróun nýrra atvinnu- og námstækifæra með úrræðum á borð við Atvinnutorg, Vinnandi vegur og Nám er vinnandi vegur. Fjölbrautaskóli Suðurnesja mun bjóða upp á sérstaka námsleið fyrir einstaklinga sem standa ekki vel að vígi að loknum grunnskóla og hafa ekki áhuga á hefðbundnu bóklegu námi. Fræðsluskrifstofan í Reykjanesbæ vinnur að verkefninu Framtíðarsýn sem miðar að bættum námsárangri í Reykjanesbæ og nágrannasveitarfélögunum. Fjölbreytt og öflug virkni- og starfsendurhæfingarúrræði fyrir fólk á öllum aldri og með ólíkan bakgrunn. Skimunarverkefni Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og Vinnumálastofnunar sem miðar að því að skima fyrir heilsufarslegum vandamálum meðal atvinnulausra einstaklinga. Þeim einstaklingum sem reynast vera í áhættuhópi er vísað í viðtal hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Öflugar menntastoðir Á Suðurnesjum starfa öflugar menntastoðir en þar á meðal eru Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Fisktækniskólinn, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Samvinna starfsendurhæfing. Á Ásbrú hefur einnig byggst upp öflugt háskólasamfélag en þar er starfræktur Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs. Virkni- og starfsendurhæfingarúrræði Á Suðurnesjum eru fjölbreytt virkni- og starfsendurhæfingarúrræði í boði fyrir einstaklinga sem ekki eru á vinnumarkaði, til dæmis vegna veikinda, slysa- og félagslegra erfiðleika. Má þar nefna Samvinnu, Björgina–geðræktarmiðstöð Suðurnesja, Virkjun og Fjölsmiðjuna. Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum býður einnig upp á ýmis virkniúrræði og á í góðu samstarfi við Vinnumálastofnun hvað það varðar. Íþróttir og tómstundir Suðurnes eru þekkt fyrir góðan árangur í íþróttum og þar er unnið öflugt íþróttastarf með og fyrir börn og unglinga. Má nefna að í vetur urðu karlalið Grindavíkurbæjar og kvennalið Njarðvíkur

Íslandsmeistarar í körfubolta og karlalið Keflavíkur bikarmeistarar. Fyrir stuttu náðu Holtaskóli og Heiðarskóli í Reykjanesbæ þeim frábæra árangri að verða í tveimur efstu sætunum í Skólahreysti. Á Suðurnesjum er tónlistarskóli í hverju sveitarfélagi nema í Sveitarfélaginu Vogum. Einnig er öflugt æskulýðsstarf á svæðinu eins og skátarnir, KFUM og KFUK og æskulýðsstarf kirkjunnar. Fjölbreytt menningarlíf og afþreying Á Suðurnesjum er að finna fjölbreytt menningarlíf og afþreyingu sem felst meðal annars í blómlegu tónlistarlífi, listviðburðum, söfnum, sýningum og leikhúslífi. Tónlistarlíf á Suðurnesjum er öflugt en þaðan hafa komið margir efnilegir tónlistarmenn og hljómsveitir. Árlegar hátíðir sveitarfélaganna, eins og Ljósanótt í Reykjanesbæ, Sjóarinn síkáti í Grindavík, Sólstöðuhátíð í Garði, Sandgerðisdagar og Bryggjudagar í Vogum, draga að sér fjölda fólks sem setur mark sitt á bæjarlíf sveitarfélaganna. Á Suðurnesjum er einnig í boði fjölbreytt afþreying fyrir börnin. Í Reykjanesbæ er Listahátíð barna haldin árlega og á svæðinu er að finna land-

Þetta eru Suðurnes! 6,6% af heildarmannfjölda landsins Á Suðurnesjum eru sveitarfélögin Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Sveitarfélagið Garður, Sveitarfélagið Vogar og Sandgerðisbær. Íbúafjöldi á svæðinu er 21.242. Samfélagið á Ásbrú telst hluti af Reykjanesbæ en þar búa um 1800 íbúar. Frá síðasta ári hefur íbúum fjölgað um 154 en mest fjölgun íbúa hefur orðið á Ásbrú. Íbúar á Suðurnesjum eru 6,6% af heildarmannfjölda landsins. Eldri borgarar á Suðurnesjum eru um það bil 3.000 talsins en hlutfall eldri borgara af íbúafjölda er lægst á Suðurnesjum miðað við aðra landshluta eða 14,1%. Næst á eftir er höfuðborgarsvæðið með 17,3% íbúa yfir 60 ára aldri en Norðurland vestra er með hæsta hlutfallið eða 22%. Þrátt fyrir þetta er félag eldri borgara á Suðurnesjum annað fjölmennasta félagið á landinu með um 2.000 félagsmenn. 9,8% Suðurnesjamanna 16 - 66 ára á örorkulífeyri Síðustu ár hafa Suðurnesin skorið sig úr í samanburði við önnur landsvæði sérstaklega

hvað varðar atvinnuleysi, lágt menntunarstig og fjölda öryrkja. Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins frá árinu 2011 eru 7,4% einstaklinga á aldrinum 16 - 66 ára á örorkulífeyri miðað við landið allt. Á Suðurnesjum eru 9,8% einstaklinga á þessum aldri á örorkulífeyri en árið 2010 var hlutfallið 8,8%. Sé litið til ársins 2003 er staðan önnur en þá var hlutfall örorkulífeyrisþega á Suðurnesjum 6,6% og svæðið skar sig ekki úr miðað við aðra landshluta. Þá var hlutfall örorkulífeyrisþega á Norðurlandi eystra 7% og í Reykjavík 6,7%. Frá og með árinu 2007 fór örorkulífeyrisþegum á Suðurnesjum að fjölga og svæðið fór að skera sig úr samanborið við aðra landshluta og hefur gert síðan. Velta má fyrir sér hvort brotthvarf varnarliðsins árið 2006 hafi haft einhver áhrif á þessa þróun en margir starfsmenn varnarliðsins voru komnir á efri ár þegar varnarliðið fór af svæðinu og áttu hugsanlega í meiri erfiðleikum með að finna annað starf. Af þeim 1154 einstaklingum á landinu

sem eru á endurhæfingarlífeyri eru 94 á Suðurnesjum eða 8%. Urðu illa úti í efnahagshruninu Svæðið varð fyrir verulegu áfalli við brotthvarf varnarliðsins árið 2006 en þá má segja að þeir erfiðleikar sem Suðurnesin standa frammi fyrir í dag hafi hafist fyrir alvöru. Suðurnesin urðu einnig illa úti í efnahagshruninu haustið 2008 í samanburði við aðra landshluta. Á svæðinu hefur nauðungarsölum farið fjölgandi og eignir Íbúðalánasjóðs eru flestar á Suðurnesjum. Umboðsmaður skuldara opnaði útibú í Reykjanesbæ í desember 2010 til þess að mæta auknu álagi á svæðinu. Lítið þokast í nýjum atvinnutækifærum Suðurnesjabúar hafa undanfarið beðið eftir nýjum atvinnutækifærum en lítið hefur þokast í þeim málum. Með tilliti til aðstæðna á svæðinu hafa stjórnvöld reynt að bregðast við með ýmsum hætti. Iðnaðarráðuneytið lagði til að mynda til fjármagn í stofnun atvinnuþróunarfélags, velferðarráðuneytið lagði svæðinu lið með Suðurnesjavaktinni sem starfar á vegum velferðarvaktarinnar og mennta- og menningarmálaráðuneytið beitir sér fyrir eflingu menntunar og fjölbreyttari námstækifærum á svæðinu.

Félagsþjónusta sveitarfélaganna á Suðurnesjum Aukið álag og málin þyngri Á Suðurnesjum eru starfræktar þrjár félagsþjónustur þ.e. í Reykjanesbæ, Grindavíkurbæ og Sandgerðisbæ. Í hinum síðastnefnda er rekin sameiginleg félagsþjónusta fyrir Sandgerðisbæ, Garð og Voga. Einstaklingum á fjárhagsaðstoð á Suðurnesjum fjölgaði árið 2011 en árið 2010 fengu 420 einstaklingar fjárhagsaðstoð hjá sveitarfélögunum en þeim fjölgaði í 514 árið 2011. Mesta aukningin var í Reykjanesbæ en þar fjölgaði einstaklingum á fjárhagsaðstoð úr 331 árið 2010 upp í 409 árið 2011. Á framfæri þessara 514 einstaklinga sem fengu fjárhagsaðstoð árið 2011 voru 311 börn. Í samtali við félagsmálastjóra á svæðinu kemur fram að álagið hafi aukist á milli ára, málin séu orðin þyngri og aukning hafi orðið í fósturmálum og einnig hafi farið vaxandi að mál séu leidd fyrir dóm. Það virðist vanta fleiri úrræði fyrir foreldra svo að þeir séu betur í stakk búnir til þess að takast á við erfiðleika í fjölskyldulífinu og er þá verið að tala um meiri stuðning og ráðgjöf varðandi uppeldi. Vinnuumhverfi félagsráðgjafa og annarra starfsmanna hjá félagsþjónustum sveitarfélaganna hefur breyst verulega á undanförnum árum en starfsmenn finna fyrir meiri reiði og örvæntingu í samskiptum við skjólstæðinga sem standa höllum fæti og eru jafnvel að missa eigur sínar. Af þeim einstaklingum sem eru á fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ hafa 166 aldrei átt bótarétt hjá Vinnumálastofnun eða eru búnir að fullnýta bótarétt sinn. Miðað við áætlun mun fjölga enn frekar í þeim hópi sem mun fullnýta bótarétt sinn á árinu 2012. Athygli vekur að einstaklingum í aldurshópnum 20 - 29 ára fjölgar mest á milli ára og er ennþá stærsti hópurinn sem þarf á fjárhagsaðstoð að halda. Kostnaður við fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna á Suðurnesjum fer vaxandi en árið 2010 greiddu sveitarfélögin samtals rúmar 137 milljónir króna í fjárhagsaðstoð en sú fjárhæð fór upp í tæpar 196 milljónir króna árið 2011. Hjá Reykjanesbæ var hlutfallslega mest hækkun á kostnaði við fjárhagsaðstoð milli áranna 2010 og 2011 eða 44%. Hjá Sandgerðisbæ/Garði/ Vogum var hækkunin 38% en var minnst hjá Grindavíkurbæ eða 36%.


13

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012

SUÐURNESJAVAKTIN n Suðurnesjavaktina skipar samstarfshópur, sem er fjölbreyttur hópur lykilfólks á Suðurnesjum þar á meðal allir félagsmálastjórar svæðisins, fulltrúar frá verkalýðshreyfingunni og Rauða krossinum og fulltrúar sex ríkisstofnana, fulltrúi kirkjunnar og skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Suðurnesjavaktin er óháður greiningar- og álitsgjafi sem leggur fram tillögur til stjórnvalda og hagsmunasamtaka og fylgir þeim eftir. Verkefnisstjóri Suðurnesjavaktarinnar er Lovísa Lilliendahl. Hún svaraði nokkrum spurningum blaðsins.

„Öll sveitarfélögin hafa að geyma spennandi aðdráttarafl fyrir ferðamenn“ námsdýragarð, Skessuhelli, Fræðasetrið í Sandgerði, Saltfisksetrið í Grindavík og fleira. Ferðaþjónusta Síðustu ár hefur starfsemi í ferðaþjónustu færst í aukana á Suðurnesjum. Öll sveitarfélögin hafa að geyma spennandi aðdráttarafl fyrir ferðamenn og má þar nefna Fræðasetrið í Sandgerði, Garðskagavita og fjölbreytt fuglalíf þar í kring, Duushús og Víkingaheima, Kvikuna sem er auðlinda- og menningarhús í Grindavík, að ógleymdu Bláa lóninu. Heilsutengd ferðaþjónusta hefur farið vaxandi á svæðinu þar sem bæði innlendir og erlendir einstaklingar eiga kost á að sameina lækningameðferðir og ferðalag um landið. Á Ásbrú er einnig unnið að uppbygg-

ingu heilsuþorps og á svæðinu er verulegt framboð af húsnæði fyrir margþætta starfsemi. Nálægðin við alþjóðaflugvöll hefur komið sér vel fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Fyrirtæki og önnur starfsemi Starfsemi í tengslum við Keflavíkurflugvöll, Hitaveitu Suðurnesja og Helguvík er mikill styrkleiki fyrir svæðið sem mun koma til með að styrkjast enn frekar á næstu árum. Á Ásbrú, gamla varnarliðssvæðinu, hefur fjöldi fyrirtækja sest að, bæði rótgróin fyrirtæki og frumkvöðlafyrirtæki. Í frumkvöðlasetrinu Eldey eru starfandi um 18 sprotafyrirtæki í tengslum við atvinnuþróunarfélagið Hekluna. Á svæðinu er nóg framboð af húsnæði og tækifærin því mörg. Þróunarfélag Keflavíkur, Kadeco, sér um að koma fasteignum á svæðinu í notkun og vinnur markvisst að því að laða að fleiri fyrirtæki.

Atvinnumálin

39% atvinnulausra yngri en 30 ára Tölur frá Vinnumálastofnun sýna að dregið hefur úr atvinnuleysi á landinu miðað við sama tíma í fyrra. Í maí 2011 mældist atvinnuleysi á Suðurnesjum 12,1% en var 9,4% í maí 2012. Það er mun hærra hlutfall en í öðrum landshlutum en næst á eftir Suðurnesjum kemur höfuðborgarsvæðið með 6,3% atvinnuleysi. Yfir landið allt mælist atvinnuleysið 5,6% í maí á þessu ári. Mest hefur dregið úr atvinnuleysi á Suðurnesjum samanborið við höfuðborgarsvæðið og landið allt frá því á sama tíma í fyrra. Lítill munur er milli kynjanna en karlar eru 50,3% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá en konur 49,7%. Á Suðurnesjum er hlutfallslega mest atvinnuleysi í Sandgerðisbæ eða 11,4% en minnst í Grindavíkurbæ eða 4,8% sem er undir landsmeðaltali. Samdráttur í útgerð og brotthvarf varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli árið 2006 leiddi til þess að atvinnuleysi jókst fyrr á Suðurnesjum en í öðrum landshlutum. Ein af aðgerðum ríkisstjórnarinnar í kjölfar efnahagshrunsins var að lengja tímabundið tímabil atvinnuleysisbóta úr þremur árum í fjögur ár. Margir einstaklingar á Suðurnesjum eru búnir að missa bótaréttinn eða munu missa hann á árinu 2012. Af þeim sem munu ljúka 36 mánaða bótarétti hjá Vinnumálastofnun á árinu eru 16,9% búsettir á Suðurnesjum og einnig 9,6% þeirra sem munu ljúka 48 mánaða bótarétti á árinu. Hjá Vinnumálastofnun á Suðurnesjum eru 229 einstaklingar sem hafa verið án atvinnu í meira en tvö ár en það er sambærilegt hlutfall miðað við höfuðborgarsvæðið. Atvinnuleysi meðal ungs fólks er ennþá töluvert áhyggjuefni á svæðinu. Einstaklingar yngri en 30 ára eru 39% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá á Suðurnesjum en það hlutfall stendur í stað miðað við sama tíma árið 2011. Yfir landið allt er hlutfall atvinnulausra einstaklinga undir 30 ára aldri 32%. Þá eru 11,5% allra einstaklinga á aldrinum 20 - 29 ára sem búa á Suðurnesjum á atvinnuleysisskrá.

Staðan hefur bæði lagast og versnað

Getur þú sagt mér í stuttu máli hver munurinn er á milli þeirra tveggja áfangaskýrsla sem gerðar hafa verið um Suðurnes. Hverjar eru breytingarnar á „ástandinu“ á svæðinu? Fyrri áfangaskýrsla Suðurnesjavaktarinnar kom út í júní 2011 en sú síðari kom út í júní síðastliðnum. Frá því að fyrri áfangaskýrslan kom út má segja að staðan hafi bæði lagast og versnað. Ef við byrjum á atvinnumálunum þá hefur dregið meira úr atvinnuleysi á Suðurnesjum en á öðrum landssvæðum en hér er hlutfall atvinnuleysis samt sem áður langhæst. Í nýju skýrslunni sjáum við áfram að það eru margir sem eiga í miklum fjárhagserfiðleikum. Hér á svæðinu er sem dæmi hæst hlutfall heimila í vanskilum, nauðungarsölum hefur farið fjölgandi og fleiri einstaklingar virðast telja einu leiðina að fara í gjaldþrot. Eignir í eigu Íbúðalánasjóðs eru langflestar hérna á Suðurnesjum miðað við aðra landshluta eða samtals 579. Til samanburðar eru eignir sjóðsins á höfuðborgarsvæðinu samtals 352. Á sama tíma árið 2011 voru eignir sjóðsins á Suðurnesjum samtals 309 þannig að við erum að sjá gríðarlega aukningu á milli ára. Þá er mikið álag á félagsþjónustur á svæðinu en hjá félagsþjónustunni í Reykjanesbæ hafa framlög til fjárhagsaðstoðar farið langt fram úr áætlun. Fjárhagslegir og félagslegir erfiðleikar gera vart við sig um allt land en því miður skera Suðurnesin sig úr að svo mörgu leyti. Það sem við teljum til jákvæðra breytinga er að með tilkomu atvinnuþróunarfélagsins Heklunnar hefur tækifærum fjölgað fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að fara út í frumkvöðlastarfsemi en nýjum sprotafyrirtækjum á Ásbrúarsvæðinu hefur fjölgað á undanförnum mánuðum og eru nú orðin í kringum tuttugu talsins. Hvernig metið þið stöðuna á Suðurnesjum í framhaldi af nýjustu áfangaskýrslunni? Staðan er ekki góð eins og við höfum öll orðið vör við. Stærsta vandmálið á svæðinu er þetta mikla atvinnuleysi því það hefur keðjuverkandi áhrif ef svo má segja. Við erum að glíma við langtímaatvinnuleysi og það er engum hollt að þurfa að upplifa að vera í þeirri stöðu. Álag hefur aukist hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og einstaklingar eru farnir að glíma við þyngri

og erfiðari vandamál og þurfa meiri stuðning og eftirfylgni. Við í Suðurnesjavaktinni höfum þó einnig viljað leggja áherslu á það jákvæða sem er að gerast á svæðinu en svæðið býr yfir mörgum styrkleikum eins og fram kemur í skýrslunni. Undanfarin tvö ár hefur verið gripið til fjölmargra aðgerða að hálfu stjórnvalda til þess að styðja við svæðið meðal annars með formlegu samstarfi Suðurnesjavaktarinnar á sviði velferðarmála, verkefnisstjórar á vegum menntamálaráðuneytisins hafa unnið að því að efla menntun á svæðinu og atvinnuþróunarfélagið Heklan var stofnað. Hér á svæðinu eru einnig í boði fjölmörg virkni- og starfsendurhæfingarúrræði og atvinnu- og námstækifærum hefur fjölgað með úrræðum á borð við Atvinnutorg, Vinnandi vegur og Nám er vinnandi vegur þannig að flestir ættu að geta fundið úrræði við sitt hæfi. Það er hins vegar nauðsynlegt að fleiri einstaklingar sem á þurfa að halda sæki þessi úrræði. Á hvað ber helst að leggja áherslu á á Suðurnesjum m.v. niðurstöðu skýrslunnar? Við teljum mikilvægt að þeir einstaklingar sem eiga í hvað mestum erfiðleikum sæki sér aðstoð fyrr en síðar og fái þann stuðning sem þeir þurfa. Það skiptir svo miklu máli sérstaklega fyrir atvinnuleitendur að halda sér í virkni þar til vinnan býðst, sem hún mun á endanum gera. Það þarf að styðja betur við atvinnustarfsemi á svæðinu og búa vel í haginn fyrir stofnun nýrra fyrirtækja. Í skýrslunni kemur einnig fram að menntunarstig einstaklinga á Suðurnesjum er lægra en annars staðar á landinu. Í nýlegri könnun Capacent Gallup kom fram að viðhorf til menntunar á Suðurnesjum er mjög jákvætt og við þurfum að vera duglegri að nýta okkur námstækifærin og það er einnig hlutverk okkar foreldranna að hvetja börnin okkar til frekara náms. Það er einnig mikilvægt að starfsfólk í velferðarþjónustu fái góðan stuðning og sé í góðum tengslum við hvert annað því það gerir vinnuna auðveldari og fólkið nýtur góðs af. Suðurnesjavaktin stóð meðal annars fyrir starfsdegi fyrir fólk í velferðarþjónustu á síðasta ári sem tókst einstaklega vel og þar kom vel í ljós hve frábært starfsfólk við höfum hérna á svæðinu við að sinna þessum málum. Þannig að við teljum að það þurfi

að hlúa vel að mannauðnum á svæðinu á meðan við göngum í gegnum þetta erfiða tímabil. Hvert er starf Suðurnesjavaktarinnar? Hversu oft kemur þessi hópur saman? Suðurnesjavaktin var sett á laggirnar í lok árs 2010 að ósk heimamanna til þess að efla og styrkja samstarf á sviði velferðarmála þvert á öll sveitarfélögin á svæðinu. Suðurnesjavaktin er hluti af starfsemi velferðarvaktarinnar sem starfar á vegum velferðarráðuneytisins. Í Suðurnesjavaktinni eru fulltrúar lykilaðila í velferðarmálum á svæðinu. Þar sitja allir félagsmálastjórarnir, fulltrúar frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Vinnumálastofnun, mörgum menntastofnunum, kirkjunni, stéttarfélögum, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Sýslumanninum í Keflavík, Umboðsmanni skuldara, Íbúðalánasjóði og Rauða krossinum. Við hittumst mánaðarlega og leggjum áherslu á að kortleggja svæðið vel og að hafa ávallt uppfærðar tölulegar upplýsingar sem og aðrar upplýsingar um stöðuna á svæðinu sem við höfum svo meðal annars notað við gerð áfangaskýrslnanna. Suðurnesjavaktin tók einnig saman bækling um úrræði og athafnir sem eru í boði á svæðinu á sviði velferðarmála og hefur nýst vel í þjónustu við einstaklinga og leitt til nánara samstarfs. Við höfum hvatt til samstarfs um tiltekin verkefni en þar má til dæmis nefna samstarf fulltrúa foreldrafélaga á öllu svæðinu. Hvert er framhaldið hjá Suðurnesjavaktinni. Verður því starfi haldið áfram næstu ár? Suðurnesjavaktin mun starfa að minnsta kosti til áramóta en það mun koma í ljós á næstunni hvort eða með hvaða hætti samstarfið heldur áfram á komandi ári.


14

fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR

SUÐURNESJAVAKTIN

Hvaða úrræði eru fyrir atvinnuleitendur? Vinnumálastofnun býður upp á ýmis úrræði fyrir atvinnuleitendur og má þar nefna ÞOR (Þekking og reynsla) og UFTA (Ungt fólk til athafna) sem bæði miða að því að virkja atvinnuleitendur og auðvelda þeim að fá vinnu á ný. Síðastliðið haust var ýtt úr vör átakinu Nám er vinnandi vegur en það gaf atvinnuleitendum kost á að fara í nám eina önn án þess að atvinnuleysisbætur myndu skerðast. Eftir önnina gafst þeim sem voru í ólánshæfu námi kostur á framfærsluaðstoð næstu þrjár annir. Þeir sem voru í lánshæfu námi sneru sér til Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Samkvæmt upplýsingum frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja voru 35 einstaklingar sem hófu nám í skólanum á haustönn 2011 á vegum Vinnumálastofnunar sem munu halda áfram námi. Framhald verður á þessu úrræði Vinnumálastofnunar haustið 2012 en einungis verður hægt að skrá sig í iðn- og starfsnám í framhaldsskólum og í frumgreinadeildir Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Bifröst og Keilis á Ásbrú. Í febrúar síðastliðnum fór af stað verkefnið

Vinnandi vegur. Með þátttöku í Vinnandi vegi eiga atvinnurekendur kost á styrk með ráðningu nýrra starfsmanna úr hópi atvinnuleitenda í allt að eitt ár. Átakið beinir sjónum sérstaklega að einstaklingum sem hafa verið án vinnu lengur en 12 mánuði.

eða námstengdum úrræðum eða starfsendurhæfingu. Atvinnutorgið hefur farið vel af stað en um það bil 15 einstaklingar eru nú komnir með störf á almennum vinnumarkaði, eru í vinnustaðarnámi eða öðrum virkniúrræðum. Fyrirtæki á Suðurnesjum hafa brugðist vel við þessu úrræði og vilja leggja sitt af mörkum til þess að bæta atvinnustöðuna á svæðinu.

Í mars síðastliðnum var ýtt úr vör nýju úrræði fyrir ungt fólk sem nefnist Atvinnutorg en það er samstarfsverkefni velferðarráðuneytisins, Vinnumálastofnunar og Reykjanesbæjar. Atvinnutorgið á að veita ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hvorki er á vinnumarkaði né í námi, náms- eða atvinnutengda ráðgjöf og stuðning við að finna úrræði við hæfi. Markmiðið er að bjóða öllum þessum ungmennum úrræði sem geta falist í starfsþjálfun eða atvinnu, námi

Í maí 2012 voru að meðaltali um 477 einstaklingar í vinnumarkaðsúrræðum. Langflestir í þessum hópi voru í námstengdum úrræðum eða um 387 einstaklingar en 90 voru í starfstengdum úrræðum, þ.e. á reynsluráðningareða starfsþjálfunarsamningum.

VIÐBRÖGÐ VIÐ SKÝRSLUNNI

Tryggja verður áframhaldandi uppbygginu atvinnutækifæra „Mér finnst þessi skýrsla sýna að okkur hefur miðað í rétta átt hér á Suðurnesjum og það hefur margt jákvætt verið að gerast. Ég get þó ekki sagt að ástandið sé orðið ásættanlegt og enn eru ótal atriði sem þarf að vinna í. Mikilvægasta verkefnið er að tryggja áframhaldandi uppbyggingu atvinnutækifæra og þar skiptir miklu máli að framkvæmdir við álverið í Helguvík komist í gang sem fyrst. Mér finnst líka mikilvægt að við höldum áfram að huga með markvissum hætti að atvinnuþróun eins og gert hefur verið í gegnum Hekluna,“ segir Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Sandgerðis um áfangaskýrslu Suðurnesjavaktarinnar. „Það er áhyggjuefni hversu hlutfall háskólamenntaðra er langt fyrir neðan landsmeðaltal. Því verður að breyta m.a. með því að efla enn frekar menntastofnanir á Suðurnesjum og styrkja samvinnu og samstarf þeirra á milli. Þá er sá fjöldi eigna á Suðurnesjum sem er í höndum Íbúðalánsjóðs sláandi. Það þarf örugglega að greina þær tölur betur en þó er klárt að þetta getur ekki talist eðlilegt ástand og hlýtur að vera sameiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga að skoða það nánar. Það væri auðveldlega hægt að nefna fleiri atriði úr þessari ágætu skýrslu sem er fín samantekt og gott verkfæri í höndum okkar allra sem vilja hag Suðurnesjanna sem mestan. Hún er gagnleg til að skilgreina þau verkefni sem þarf að takast á við og hjálpar til við að sjá þær leiðir sem eru færar. Ég hef óbilandi trú á Suðurnesjunum og Suðurnesjamönnum og þegar maður skoðar þau tækifæri sem við höfum hér á svæðinu þá er ekki annað hægt en að vera bjartsýnn á framtíð okkar sem eitt af sterkustu landsvæðum Íslands,“ segir Ólafur Þór í samtali við blaðið.

Starfsmenn velferðarmála á svæðinu meðvitaðri „Strax í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008 stóð Reykjanesbær fyrir því að kalla saman alla þá aðila á Suðurnesjum sem vinna að velferð með það að markmiði að fylgjast sameiginlega með þróuninni og bregðast við eftir því sem þörf er á. Suðurnesjavaktin kemur í kjölfar þess, en það hafði sýnt sig að til að halda málinu vakandi þyrfti starfsmann sem héldi utan um þetta samstarf. Velferðarráðuneytið lagði hann til, til tveggja ára,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Starfsmenn Reykjanesbæjar frá fjölskylduog félagssviði og fræðslusviði hafa tekið virkan þátt í þessu starfi frá upphafi. Starfið hefur fyrst og fremst skilað því að stofnanir og starfsmenn velferðarmála á svæðinu eru meðvitaðri um verkefni og aðstæður hver hjá öðrum og boðleiðir ættu því að vera styttri. Hvað framhaldið varðar, þá munum við áfram taka þátt í verkefninu ef Velferðarráðuneytið heldur áfram að leggja því lið, segir Árni Sigfússon.

Menntunarstig einstaklinga í atvinnuleit Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun er menntunarstig þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá á Suðurnesjum lægra en meðal atvinnuleitenda á landinu öllu, en rúm 69% þeirra eru einungis með grunnskólamenntun. Á landsvísu er hlutfall einstaklinga á atvinnuleysisskrá sem eru aðeins með grunnskólamenntun rúmlega 49%. Háskólamenntaðir einstaklingar á atvinnuleysisskrá á Suðurnesjum eru 5,3% en yfir landið er hlutfallið 16,1%.

Atvinnuþróunarfélagið Heklan Atvinnuþróunarfélagið Heklan var formlega sett á laggirnar í apríl 2011 en iðnaðarráðuneytið og Byggðastofnun leggja því til 20 milljónir króna á ári. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum aflar mótframlaga og sér að öðru leyti um fjármögnun starfseminnar eins og tíðkast í atvinnuþróunarfélögum annarra landshluta. Verkefni Heklunnar eru fjölbreytt og eru flest á sviði atvinnu- og byggðaþróunar auk nýsköpunarverkefna. Heklan sér einnig um rekstur vaxtarsamnings Suðurnesja og menningarsamnings Suðurnesja. Óhætt er að segja að Heklan sé ein af jákvæðu afleiðingum efnahagshrunsins. Í Eldey frumvöðlasetri, þar sem Heklan hefur aðsetur, blómstrar frumkvöðlastarfsemi og eru þar nú starfandi 18 sprotafyrirtæki og yfir 30 starfsmenn. Heklan aðstoðar frumkvöðla við að stíga sín fyrstu skref, þróa viðskiptahugmyndir sínar og koma sprotafyrirtækjum á legg. Hægt er að fá leigt smiðjurými, skrifstofurými og aðstöðu í opnu vinnurými. Haldin eru námskeið fyrir frumkvöðla og eins hafa leigjendur haldið námskeið í húsinu en þeir hafa aðgang að fundarrýmum og kennslustofu.

Rúmlega 16% íbúa í alvarlegum vanskilum n Í nýlegri skýrslu frá Creditinfo kemur fram að rúmlega 16% íbúa á Suðurnesjum yfir 18 ára aldri eiga í alvarlegum vanskilum. Næst á eftir Suðurnesjum kemur Suðurland með 9,7% og höfuðborgarsvæðið með 9,5%. Sýslumaðurinn í Keflavík Nauðungarsölum heimila á Suðurnesjum hefur farið fjölgandi undanfarin ár. Þróun í nauðungarsölum síðastliðin tíu ár gefur til kynna að erfiðleikar íbúa á svæðinu hafi í raun hafist fyrir hrun, en strax árið 2008 verður mikil aukning í nauðungarsölum íbúðarhúsnæðis hjá sýslumanninum á Suðurnesjum. Árið 2010 náðu nauðungarsölurnar hámarki en þá var fjöldi nauðungarsölumála alls 279 og er átt við bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Samanburður á fyrstu fjórum mánuðum áranna 2011 og 2012 sýnir fækkun í sölu íbúðarhúsnæðis úr 164 íbúðum árið 2011 í 93 íbúðir 2012. Staðan er önnur varðandi atvinnuhúsnæði en á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2012 hafa verið seldar þrefalt fleiri eignir í atvinnurekstri en allt árið 2011. Meirihluti eignanna sem seldar hafa verið nauðungarsölu eru í Reykjanesbæ. Á árabilinu 2008 - 2011 námu þær eignir tæpum 70% af seldum eignum í heild. Hámarkinu

í aukningu nauðungarsölu virðist hafa verið náð ári fyrr í fámennari sveitarfélögunum eða árið 2010. Í maí 2011 hófst rannsókn hjá sýslumanninum í Keflavík á orsökum nauðungarsölu heimila á Suðurnesjum og er búist við að henni verði lokið í byrjun sumars 2012 en gert er ráð fyrir að skýrslan dragi fram gagnlegar upplýsingar sem nýta má meðal annars við forvarnarstarf. Umboðsmaður skuldara Umboðsmaður skuldara hefur verið starfað Suðurnesjum frá desember 2010 og verður áfram meðan þörf krefur. Samkvæmt upplýsingum frá Umboðsmanni skuldara á Suðurnesjum er staðan á svæðinu ekki góð og hefur aukist að einstaklingar taki þá ákvörðun að fara í gjaldþrot þar sem þeir sjá ekki fram á að geta staðið við skuldbindingar sínar. Samkvæmt upplýsingum frá dómstólaráði voru 44 einstaklingar á Suðurnesjum úrskurðaðir gjaldþrota árið 2011 en þeir voru 83 á höfuðborgarsvæðinu. Fram til 31. mars á þessu

ári hafa 27 einstaklingar á Suðurnesjum verið úrskurðaðir gjaldþrota sem er tæplega helmingur af öllum gjaldþrotum á landinu. Á sama tíma hafa 16 einstaklingar verið úrskurðaðir gjaldþrota á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfall íbúa, sem hafa farið í ráðgjöf og greiðsluaðlögun frá því Umboðsmaður skuldara tók til starfa í ágúst 2011, er mjög hátt á Suðurnesjum samanborið við aðra landshluta en 3,3% íbúa á Suðurnesjum fengu ráðgjöf eða fóru í greiðsluaðlögun. Í Reykjavík er hlutfallið 1,9% og á Suðurlandi er það 1,8%. Sennilega hefur gott aðgengi að Umboðsmanni skuldara á Suðurnesjum þau áhrif að fólk fer fyrr af stað og fær ráðgjöf varðandi sín mál. Af þeim sem eru í greiðsluaðlögum hjá Umboðsmanni skuldara á Suðurnesjum eru 34% á aldrinum 31-40 ára. Suðurnes eru álíka stödd miðað við aðra landshluta hvað varðar meðalskuld á hverja umsókn, meðaltekjur og meðalgreiðslugetu eftir framfærslukostnað en eins og áður sagði er fjöldinn mun meiri. Gjaldþrot fyrirtækja 2009-2011 Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands urði alls 1.578 fyrirtæki á landinu gjaldþrota árið 2011. Af þeim voru 1206 á höfuðborgarsvæðinu, þar á eftir var Suðurland með 118 gjaldþrot og svo Suðurnes með 107 gjaldþrot. Af gjaldþrota fyrirtækjum á Suðurnesjum voru 31,8% í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð. Frá árinu 2009 hafa 232 fyrirtæki á Suðurnesjum orðið gjaldþrota sem er sambærilegur fjöldi og á Suðurlandi.


15

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012

ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA UM TILLÖGUR STJÓRNLAGARÁÐS AÐ FRUMVARPI TIL STJÓRNSKIPUNARLAGA 20. OKTÓBER 2012 Kjörskrá og kjörstaðir í Reykjanesbæ. Kjörskrá í Reykjanesbæ vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur Stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga sem fram fer þann 20. október 2012 liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar frá og með 10. október 2012 fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Kjörfundur fyrir íbúa í Innri Njarðvík, Höfnum og Ásbrú er í Akurskóla Kjörfundur fyrir íbúa í Ytri Njarðvík er í Njarðvíkurskóla Kjörfundur fyrir íbúa í Keflavík er í Heiðarskóla Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstaðir opna kl. 09:00 og loka kl. 22:00. Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Heiðarskóla sími 420-4515. Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar

Auglýsing um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram á að fara 20. október 2012 Mánudag 15. október til laugardags 20. október verður utankjörfundaratkvæðagreiðsla sem hér segir á skrifstofum embættisins að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ og Víkurbraut 25, neðri hæð, Grindavík: Reykjanesbær: sAlla virka daga frá kl. 08:30 til 19:00 s Á kjördag, laugardaginn 20. október, verður opið frá kl. 10:00 til 12:00. Grindavík: s Alla virka daga frá kl. 8:30 til 13:00 Atkvæðagreiðsla á sjúkrahúsum og dvalarheimilum aldraðra fer fram 16.-18. október nk. skv. nánari auglýsingu á viðkomandi stofnunum.

Sýslumaðurinn í Keflavík 10. október 2012 Þórólfur Halldórsson sýslumaður


16

StĂłru-VogaskĂłli 140 ĂĄra

FrĂŠ tti r

fimmtudagurinn 11. október 2012 • V�KURFRÉTTIR

S

tĂłru-VogaskĂłli er 140 ĂĄra Ă­ haust. AfmĂŚlisveislan hefst kl. 12 ĂĄ hĂĄdegi fimmudaginn 18. oktĂłber nk. Dagana åður munu nemendur og starfslið skĂłlans sĂśkkva sĂŠr Ă­ Ăžessa lĂśngu sĂśgu og ĂĄrangur Ăžess mun vĂŚntanlega sjĂĄst uppi um alla veggi skĂłlahĂşssins. Einnig verður bakað baki brotnu, krĂŚsingar lagðar ĂĄ borð og hellt upp ĂĄ. Flutt verða ĂĄvĂśrp og erindi og Ă˝mislegt til gamans gert. Einn af elstu skĂłlum landsins Haustið 1872 tĂłku tveir skĂłlar til starfa Ă­ nĂ˝byggðu hĂşsnÌði. Ăžeir voru båðir ĂĄ Suðurnesjum; GerðaskĂłli Ă­ Garði og skĂłlinn okkar hĂŠr Ă­ SveitarfĂŠlaginu Vogum sem Þå hĂŠt Vatnsleysustrandarhreppur og nåði einnig yfir NjarðvĂ­k. Ă? upphafi hĂŠt skĂłlinn okkar ĂžvĂ­ langa nafni: “Thorchillii BarnaskĂłlinn Ă­ Vatnsleysustrandarhreppiâ€?. Ăžað nafn festist Þó ekki við hann, heldur var hann kallaður SuðurkotsskĂłli, enda byggður ĂĄ jĂśrðinni Suðurkoti Ă­ Brunnastaðahverfi. Seinna breyttist nafnið Ă­ BrunnastaðaskĂłli og Ăžegar hann var síðan fluttur Ă­ Voga ĂĄrið 1979 fĂŠkk hann nĂşverandi nafn, StĂłru-VogaskĂłli, enda byggður Ă­ tĂşni hĂśfuðbĂ˝lisins StĂłru-Voga. RĂşstir tveggja síðustu Ă­búðarhĂşsanna að StĂłru-Vogum, sem reist voru 1871 og 1912, eru nĂş hluti af leikvelli skĂłlans. Allan tĂ­mann er Ăžetta sama stofnunin Þó hĂşs vĂŚru byggð og rifin og nĂśfnum breytt. Grunnur elsta skĂłlahĂşssins er enn heillegur og aðalbygging skĂłlans frĂĄ 1944 – 1979 er nĂş Ă­búðarhĂşsið SkĂłlatĂşn Ă­ Brunnastaðahverfi. Byggð voru tvĂś minni hĂşs, annað Ă­ KĂĄlfatjarnarhverfi og hitt ĂĄ VatnsleysubĂŚjum og kennt Ăžar um tĂ­ma Ăžegar hverfin voru barnmĂśrg. Síðan kom skĂłlabĂ­ll til sĂśgunnar 1942 – með Ăžeim fyrstu ĂĄ landinu – og eftir Ăžað var ekki lengur ÞÜrf ĂĄ kennslu Ă­ einstĂśkum hverfum. MinjafĂŠlag Vatnsleysustrandar hefur nĂş endurbyggt annað Ăžessara hĂşsa að KĂĄlfatjĂśrn og stendur til að koma Ăžar upp skĂłlasafni. Thorchilliisjóður fyrir fĂĄtĂŚk bĂśrn Hver var Ăžessi Thorchillii sem skĂłlinn var kenndur við? Hann hĂŠt JĂłn Ăžorkelsson (16971759), barn efnaðra foreldra Ă­ Innri-NjarðvĂ­k. Hann varð mikill lĂŚrdĂłmsmaður og rektor SkĂĄlholtsskĂłla um tĂ­ma og kallaði sig Thorchilliius upp ĂĄ LatĂ­nu. Hann eignaðist ekki bĂśrn en efnaðist vel og gaf eftir sinn dag eigur sĂ­nar Ă­ sjóð til að “allra aumustu og fĂĄtĂŚkustu bĂśrn Ă­ KjalarnesĂžingi skyldu fĂĄ kristilegt uppeldi, Ăž.m.t. hĂşsnÌði, fÌði og klÌðiâ€?. Ă rið 1870 hĂłf StefĂĄn Thorarensen, prestur og sĂĄlmaskĂĄld ĂĄ KĂĄlfatjĂśrn, undirbĂşning stofnunar barnaskĂłla Ă­ Vatnsleysustrandarhreppi. Efnt var til samskota, keyptur jarðarpartur og reist skĂłlahĂşs sem var vĂ­gt 13. september 1872 með ĂžvĂ­ að halda Ăžar stofnfund skĂłlans sem hĂłf starfsemi skĂśmmu síðar og hefur starfað Ăłslitið síðan, stundum ĂĄ fleiri en einum stað samtĂ­mis. Með leyfi kĂłngsins og AlĂžingis fĂŠkkst 1200 rĂ­kisdala vaxtalaust lĂĄn til skĂłlans Ăşr Thorchillii-sjóði

En Ăžað Ăžarf meira en peninga til að stofna og reka skĂłla. Ăžað Ăžarf ekki síður menningarlegt atgervi og framsĂ˝ni. sem ekki Ăžarf að greiða meðan skĂłlinn sinnir vel bĂśrnum sem minna mega sĂ­n. Thorchilllii-sjóðurinn greiddi um ĂĄratuga skeið skĂłlagjĂśld fĂĄtĂŚkustu barnanna Ă­ Ăžessum skĂłla og síðar Ă­ fleiri skĂłlum sem stofnaðir voru ĂĄ Reykjanesskaga. MĂśrg “Thorchillii-barnannaâ€? bjuggu ĂĄ skĂłlatĂ­ma Ă­ risi skĂłlahĂşssins og råðið var fĂłlk til að ala Ăśnn fyrir Ăžeim. Ăžannig var skĂłlinn bÌði heimavistarskĂłli og heimangĂśnguskĂłli og einnig var bĂśrnum komið fyrir ĂĄ nĂĄlĂŚgum bĂŚjum, m.a. bĂśrnum Ăşr NjarðvĂ­k, en fyrstu ĂĄrin var Ăžessi skĂłli lĂ­ka fyrir NjarðvĂ­kinga uns Ăžeir komu sĂŠr upp eiginn skĂłla rĂşmum ĂĄratug síðar. Einnig var frĂĄ upphafi vĂ­sir að unglingaskĂłla (fyrir fermd bĂśrn) og handavinnukennsla fyrir stĂĄlpaðar stĂşlkur. Fyrsta veturinn voru 30 bĂśrn Ă­ skĂłlanum, Ăžar af 8 fermdir unglingar, og bjuggu 10 af bĂśrnunum Ă­ skĂłlahĂşsinu. Ă? hĂşsinu, sem var 56 m2 að grunnfleti, hÌð og ris, var einnig Ă­búð fyrir kennarann svo Ăžað hefur verið bĂşið ĂžrĂśngt. Kannski hefur Ăžað komið sĂŠr vel ĂžvĂ­ timburhĂşs ĂĄ Ăžessum tĂ­ma voru mjĂśg kĂśld. Vatnsleysustrandarhreppu Ă­ fremstu rÜð ĂĄ 19. Ăśld Hvers vegna voru stofnaðir skĂłlar svo snemma Ă­ Vatnsleysustrandarhreppi og Garði? Þå voru komnir barnaskĂłlar ĂĄ verslunarstÜðunum Eyrarbakka (frĂĄ 1852) og ReykjavĂ­k (frĂĄ 1862). Ăžað fiskaðist vel ĂĄ grunnslóð ĂĄ Ăžessum tĂ­ma åður en togveiðar komu til. HĂŠr var ÞÊttbĂ˝lla en víða annars staðar, enda fĂłr fjĂśldi Ă­bĂşa Ă­ Vatnsleysu-

Frosinn fiskur olli uppnĂĄmi

L HÊr er mynd af elsta skólahúsinu sem byggt var 1872 og stÌkkað 1886.

strandarhreppi yfir 1000 åður en hreppnum var skipt og Njarðvík klofin frå 1890. En Það Þarf meira en peninga til að stofna og reka skóla. Það Þarf ekki síður menningarlegt atgervi og framsýni. Ég lÌt à rna Daníel Júlíussyni, sagnfrÌðingi, eftir að svara Þeirri spurningu åsamt mÜrgu Üðru sem å hugann leitar, en hann flytur erindi og situr fyrir svÜrum å afmÌlishåtíðinni 18. október nk. Sjålfur Þakka Êg Hauki Aðalsteinssyni, skipasmið og åhugasagnfrÌðingi, fyrir að afla mikilvÌgra gagna um Þetta mål å Þjóðskjalasafni og víðar, sem Êg byggi grein Þessa å. Hvar stÜndum við nú? Stóru-Vogaskóli er í dag 180 barna grunnskóli með 1. – 10. bekk í 2700 m2 húsnÌði, en íbúar í sveitarfÊlaginu eru rúmlega 1100, ívið fleiri en Þegar skólinn var stofnaður. Skólinn hefur å að skipa metnaðarfullu starfsliði sem rÌkir starf sitt af alúð. Eins og í upphafi er vel hugsað um bÜrn sem minna mega sín eða hafa ýmis konar sÊrÞarfir og er skipulega unnið gegn einelti. Að einu leyti hefur skólinn sÊrstÜðu å landsvísu: HÊr få bÜrnin hådegismat í boði sveitarfÊlagsins. HÊr sitja allir við sama borð og få einstaklega góðan og hollan mat sem eldaður er í skólanum af snilldarkokki. HÊr er leitast við að sinna vel bÌði líkamlegum og andlegum ÞÜrfum barna, óhåð efnahag foreldra. Þorvaldur Örn à rnason, kennari við Stóru-Vogaskóla.

140 Ă RA AFMÆLI STĂ“RU-VOGASKĂ“LA Fimmtudaginn 18. oktĂłber hĂśldum við Ă­ StĂłru-VogaskĂłla upp ĂĄ merkisatburð. Ă? haust eru 140 ĂĄr síðan skĂłlahald hĂłfst við VatnsleysustrĂśndina! Ă? tilefni af ĂžvĂ­ bjóðum við fyrrverandi nemendum, foreldrum og Üðrum velunnurum skĂłlans til veislu kl. 12:00. Ă dagskrĂĄ verður m.a.: t 5Ă˜OMJTUBSBUSJ§J GSĂˆ 5Ă˜OMJTUBSTLĂ˜MB 4UĂ˜SV 7PHBTLĂ˜MB t ÂŤWĂšSQ PH FSJOEJ t 4âOJOH Ăˆ BGSBLTUSJ OFNFOEB GSĂˆ ¢FNBEĂšHVN t 5Ă“NBMĂ“OB ¢BS TFN NĂˆ TKĂˆ NFSLJTBUCVS§J JOOMFOEB TFN FSMFOEB Ăˆ HĂšOHVN TLĂ˜MBOT t (BNMBS NZOEJS PH NZOEBCBOETVQQUĂšLVS t 7FJUJOHBS t )SJOHCPS§TVNSÂ?§VS NF§ ÂŤSOB %BOĂ“FM +ĂžMĂ“VTTZOJ TBHOGSÂ?§JOHJ TFN TLSĂˆÂ§ hefur sĂśgu skĂłlans Verið velkomin Nemendur og starfsfĂłlk StĂłru-VogaskĂłla

Ügreglan å Suðurnesjum fÊkk fyrir helgi tilkynningu frå ÜryggisgÌslunni í FlugstÜð Leifs Eiríkssonar Þess efnis að svartur pakki vÌri utan dyra við brottfarardyr FlugstÜðvarinnar. LÜgregla fór Þegar å vettvang og opnaði pakkann. � honum reyndist vera frosinn fiskur, sem hafnaði åsamt umbúðunum í nÌsta ruslagåmi.

Slasaðar með kornabarn å HSS

L

Ügreglunni å Suðurnesjum barst fyrir helgi tilkynning Þess efnis að å Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vÌru staddar Þrjår ungar konur með kornabarn og að ÞÌr vÌru slasaðar eftir umferðarslys. � ljós kom að tvÌr kvennanna hÜfðu verið farÞegar í bíl, åsamt kornabarninu, en sú Þriðja keyrt. Þegar bifreiðin var stÜðvuð å rauðu ljósi var annarri bifreið ekið aftan å hana með Þeim afleiðingum að farÞegarnir tveir kenndu eymsla. Konurnar fóru rakleiðis å Heilbrigðisstofnun til að leita sÊr aðhlynningar og var Ünnur Þeirra flutt til Reykjavíkur til frekari skoðunar. Ungabarnið var í barnastól og slapp Það ómeitt.

SĂşpufundur um EvrĂłpumĂĄlin ĂĄ Reykjanesi

E

vrópustofa, upplýsingamiðstÜð ESB å �slandi, efnir til hådegisfundar um Evrópumålin í matsal Keilis å à sbrú å flugvallarsvÌðinu, Þriðjudaginn 16. október kl. 12:15-13:00. à fundinum fjallar Timo Summa, sendiherra ESB å �slandi, um gang aðildarviðrÌðnanna við �sland og stÜðu måla innan Evrópusambandsins og svarar spurningum. Sendiherrann talar å ensku en boðið verður upp å endursÜgn å íslensku. Jafnframt kynnir framkvÌmdastýra Evrópustofu, Birna Þórarinsdóttir, starfsemi upplýsingamiðstÜðvar ESB å �slandi. Fundurinn er opinn Üllum, og boðið upp å súpu og brauð. Hvað viltu vita? Fundurinn å �safirði er liður í åformum Evrópustofu að stuðla að aukinni umrÌðu, Þekkingu og skilningi å eðli og starfsemi ESB. � Því skyni er m.a. efnt til opinna kynningar- og umrÌðufunda víðsvegar um landið með sendiherra ESB. Fundir hafa nú Þegar verið haldnir å Akureyri, EgilsstÜðum, í Neskaupstað, Reykjavík og å �safirði.


17

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012

Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir

Skoðaðu þetta dæmi!

●

FRÁBÆR EIGN

Söluverð: 24,9

millj.

AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til kl. 17, 1. desember 2012. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@avs.is og bréflega á póstfangið AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Háeyri 1, 550 Sauðárkrókur Styrkir sem sjóðurinn veitir falla undir tvo flokka:

b. Smá- eða forverkefni Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða verkefna til undirbúnings stærri verkefna á sviði rannsókna og/eða þróunar. Styrkupphæð er allt að

Jafnframt kynnir framkvæmdastýra Evrópustofu, Birna Þórarinsdóttir, starfsemi upplýsingamiðstöðvar ESB á Íslandi.

Suðurgata 10, 101 Reykjavík | Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri | evropustofa.is

Upplýsingar hjá Stuðlabergi ✆ 420 4000 og Magnúsi ✆696 4581

a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þróunarverkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins. Veittur er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera grein fyrir verkþáttum og fjármögnun. Hver styrkur getur numið allt að átta milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verkefna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt, þarf að gera grein fyrir fullnægjandi framvindu verkefnisins áður en styrkumsókn er afgreidd.

Á fundinum fjallar Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, um gang aðildarviðræðnanna við Ísland og stöðu mála innan Evrópusambandsins og svarar spurningum.

Allir velkomnir - súpa og brauð á boðstólum!

Ertu að leigja / viltu kaupa? Súlutjörn 29 (e. hæð) Reykjanesbæ til sölu. 123m2. Fjögur rúmgóð svefnherbergi. Yfirtaka á áhvílandi 23,7 millj. kr. láni með 4,15% vöxtum. Afborganir um 111 þús. pr. mán.

Víkurbraut 56 - 240 Grindavík - Sími: 412 5968 www.fiskt.is - www.facebook.com/fisktaekniskoli - info@fiskt.is

Evrópustofa, upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi, efnir til hádegisfundar í matsal Keilis þriðjudaginn 16. október kl. 12:15-13:00.

Hringbraut 99 s Keflavík s Sími 578 5560 Opið: mánud. - föstud. 10 -18

GOTT VERÐ

Haldið verður HACCP námskeið í samstarfi við Matís hjá Fisktækniskóla Íslands í Grindavík.

Súpufundur um ESB

www.heilsuhusid.is

●

Fyrir þá sem starfa í matvælavinnslu

Kennt verður m.a. uppsetning og viðhald HACCP kerfa. Tími: 24. og 25. okt. kl. 9:00 - 16:30.

veitir ókeypis ráðgjöf í Heilsuhúsinu, Hringbraut 99, Reykjanesbæ föstudaginn 12. okt. milli kl. 15:00 og 18:00.

AUÐVELD KAUP

NÁMSKEIÐ

einni milljón króna og skal verkefninu lokið innan tólf mánaða frá úthlutun. c. Atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum Veittir eru styrkir til verkefna, sem stuðla að nýjum störfum og aukinni verðmætasköpun í sjávarbyggðum. Horft er til ýmissa verkefna, sem geta tengst t.d. framboði á sjávarfangi, ferðaþjónustu, nýjum vörum eða þjónustu. Hámarkstími verkefna er 12 mánuðir og hámarksupphæð styrkja er þrjár milljónir króna.

STAÐA FÉLAGSRÁÐGJAFA Í BARNAVERND HJÁ FJÖLSKYLDU- OG FÉLAGSSVIÐI REYKJANESBÆJAR

ATVINNA

Fjölskyldu- og félagssvið Reykjanesbæjar (FFR) auglýsir eftir starfsmanni í 100% stöðu á skrifstofu FFR . Starfið felst í vinnu að barnavernd, ráðgjöf við foreldra og börn í Reykjanesbæ, samstarfi við leik-, grunnskóla og aðrar stofnanir sem tengjast börnum. Menntun og reynsla: Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið félagsráðgjafanámi til starfsréttinda og sé með reynslu á sviði barnaverndar. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi um áramót 2012 - 2013. Laun eru skv. samningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi fagfélags. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef Reykjanesbæjar http://reykjanesbaer.is Umsóknarfrestur er til 26. október nk. Nánari upplýsingar veitir María Gunnarsdóttir, forstöðumaður barnaverndar, í síma 421-6700, maria.gunnarsdottir@reykjanesbaer.is

Um alla styrki gildir að framlag sjóðsins má ekki fara fram yfir 50% af heildarkostnaði og sjóðurinn tekur ekki þátt í að styrkja fjárfestingar. Nánari upplýsingar og umsóknarblað er að finna á heimasíðu sjóðsins www.avs.is.

AVS rannsóknasjóður rannsóknasjóður í sjávarútvegi sjávarútvegi starfar starfaráávegum vegumatvinnuvegaatvinnuvega-nýsköpunarráðuneytisins nýsköpunarráðuneytisinsog og styrkitiltilrannsóknarannsókna-og ogþróunarverkefna þróunarverkefnasem semauka aukaverðmæti verðmætisjávarfangs. sjávarfangs. veitir styrki AVS rannsóknasjóður rannsóknasjóður íí sjávarútvegi sjávarútvegi ••Háeyri Háeyri11• •550 550Sauðárkrókur Sauðárkrókur• sími • sími 6161 • www.avs.is AVS 453453 6767 • www.avs.is

Þarftu að auglýsa? Hafðu samband í síma 421 0001 eða á fusi@vf.is


18

fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Sýslumaðurinn í Keflavík Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s: 4202400

UPPBOÐ

Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Arnarhraun 2 fnr, 209-1393, Grindavík, þingl. eig. Arnar Ingi Sigurðsson og Sigurveig B Þórhallsdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 11:15. Bogabraut 14 fnr. 229-1191, Sandgerði, þingl. eig. Svava H. Fuglö Hlöðversdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 09:00. Breiðhóll 26 fnr. 230-0338, Sandgerði, þingl. eig. Andrea Sigurrós Andrésdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 09:20. Brekkugata 14 fnr. 209-6358, Vogar, þingl. eig. Guðmundur Sigurðsson og Kolbrún Dagbjört Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 10:10. Brekkugata 18 fnr. 209-6364, Vogar, þingl. eig. Kjartan Hilmisson, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Vogar, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 10:20. Brekkustígur 35a fnr 209-3069, Njarðvík, þingl. eig. Sigurður Hilmar Ólafsson og Hafdís Helga Þorvaldsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Reykjanesbær og Valitor hf, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 12:40. Efstahraun 8 fnr. 209-1628, Grindavík, þingl. eig. Þóra Björg Garðarsdóttir, gerðarbeiðendur Grindavíkurbær og Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 10:45. Háseyla 33 fnr. 209-3390, Njarðvík, þingl. eig. Dalbert Þór Arnarsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sjóvá-Almennar tryggingar hf, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 12:15. Hjallavegur 3 fnr. 209-3427, Njarðvík, þingl. eig. Sveinn Sveinsson, gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Sýslumaðurinn á Blönduósi, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 12:30. Hólagata 1 fnr. 209-4816, Sandgerði, þingl. eig. Þórhildur Björk Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 09:10. Leynisbraut 11 fnr. 209-2027, Grindavík , þingl. eig. Halldór Bogi Sigurðsson, gerðarbeiðandi Grindavíkurbær, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 11:05. Staðarhraun 23 fnr. 209-1886, þingl. eig. Linda Silvía Hallgrímsdóttir og Björgvin Björgvinsson, gerðarbeiðendur Borgun hf og Sjóvá-Almennar tryggingar hf, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 10:55. Suðurgata 1 fnr. 209-5055, Sandgerði, þingl. eig. Birkir Freyr Hrafnsson, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf., Sandgerðisbær, Sýslumaðurinn á Blönduósi og Vörður tryggingar, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 08:50. Tjarnabakki 4 fnr. 228-8314, Njarðvík, þingl. eig. Margrét Linda Helgadóttir, gerðarbeiðandi Reykjanesbær, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 12:05. Túngata 5 fnr. 209-2413, Grindavík, þingl. eig. Jón Eyjólfur Sæmundsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 16. október 2012 kl. 11:35. Sýslumaðurinn í Keflavík, 9. október 2012. Ásgeir Eiríksson, sýslumannsfulltrúi.

Sýslumaðurinn í Keflavík Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s: 4202400

MYNDASAFN VF

Ga

ma

UPPBOÐ

Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Ásabraut 14 fnr. 208-6866, Keflavík, þingl. eig. Guðleifur Magnússon, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 09:30. Duusgata 10 fnr. 223-1421, Keflavík, þingl. eig. Fídon ehf, gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 10:10. Hafnargata 23 fnr. 208-8000, Keflavík, þingl. eig. Ingibjörg M Ragnarsdóttir og Ómar Jónsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 10:00. Hátún 8 fnr. 208-8347, Keflavík, þingl. eig. Hlynur Ólafsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Vátryggingafélag Íslands hf, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 10:40. Heiðarvegur 23a fnr. 208-9047, Keflavík, þingl. eig. Baldvin Arason, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf og Sýslumaðurinn í Keflavík, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 09:20. Heiðarvegur 6 fnr. 208-9011, Keflavík, þingl. eig. Lilja Tahirih Þorsteinsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 09:40. Hringbraut 96 fnr. 208-9384, Keflavík, þingl. eig. Páll Marinó Jónsson, gerðarbeiðandi Reykjanesbær, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 10:50. Kirkjuvegur 52 fnr. 208-9688, Keflavík 33,33% eignahl., þingl. eig. Rafal Sobczak, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Blönduósi og Sýslumaðurinn í Keflavík, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 10:30. Mávabraut 5 fnr. 208-9919, Keflavík, þingl. eig. Rögnvaldur S Hilmarsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 11:00. Mávabraut 9 fnr. 208-9946, Keflavík, þingl. eig. Börkur Birgisson, gerðarbeiðendur Mávabraut 7-9,húsfélag og Reykjanesbær, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 11:10. Seljavogur 3 fnr. 209-4311, Hafnir, þingl. eig. Auður Sveinsdóttir, gerðarbeiðandi Reykjanesbær, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 09:45. Sólvallagata 26 fnr. 209-0536, Keflavík, þingl. eig. Börkur Birgisson, gerðarbeiðandi Reykjanesbær, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 09:00. Sólvallagata 27 fnr. 209-0539, Keflavík, þingl. eig. Hlynur Ólafsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Reykjanesbær og Vátryggingafélag Íslands hf, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 09:10. Vesturgata 19 fnr. 209-1247, Keflavík, þingl. eig. Guðbjörg S Guðbjartsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Landsbankinn hf. og Reykjanesbær, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 10:20. Víkurbraut 4 fnr. 209-1282, Keflavík, þingl. eig. Innvík ehf, gerðarbeiðendur Gluggasmiðjan ehf, Reykjanesbær, Sýslumaðurinn í Keflavík og Tryggingamiðstöðin hf, miðvikudaginn 17. október 2012 kl. 09:50. Sýslumaðurinn í Keflavík, 9. október 2012. Ásgeir Eiríksson, sýslumannsfulltrúi.

Ásýnd Fitja í Reykjanesbæ hefur breyst mikið á tveimur áratugum eða svo. Hér er mynd sem er tekin úr körfubíl Hitaveitu Suðurnesja og eins og sjá má þá vantar þarna fjölmargar byggingar sem nú eru komnar við Njarðarbrautina þar sem rekin er bílaþjónusta ýmiskonar, s.s. bílaumboð og þjónustuverkstæði, svo eitthvað sé nefnt.

Guðrún Rósa Guðmundsdóttir - minning Þriðjudaginn 9. október sl. kvöddum við, starfsfólk Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, kæran samstarfsmann og vin, Guðrúnu Rósu Guðmundsdóttur. Guðrún Rósa hóf störf við skólann við ræstingar snemma árs 2003, þá í hlutastarfi, tímabundið í forföllum. En það varð framhald á því og árið 2004 var hún fastráðin í hálft starf. Árið 2008 tók hún að sér allar ræstingar við skólann og var þar með komin í fullt starf. Guðrún Rósa sinnti starfi sínu af slíkri alúð og umhyggju að einstakt hlýtur að teljast. Það var ekki einungis að hún væri einstaklega vandvirk við þrif, heldur kappkostaði hún að hafa allt vel til tekið og snyrtilegt. Þótt skólastarfið væri líflegt og tónlist oft í kringum hana í starfinu, vildi hún gæða skólann annars konar lífi og kom með plöntur sem hún passaði vel upp á allt árið um kring. Plönturnar gerðu skólahúsin hlýlegri og það var einmitt ætlun hennar, að vinnustaður okkar starfsfólksins og nemendanna væri hlýlegur, hreinn og snyrtilegur. Guðrún Rósa átti það alveg til

að „lesa okkur pistilinn“ ef henni þótti við eða nemendur ekki ganga nægilega vel um. Inntakið í þeim pistlum var virðing fyrir skólanum og því sem við stöndum fyrir. Skólahús á að vera til fyrirmyndar, snyrtilegt og vel við haldið að innan sem utan. Og það er alveg rétt hjá henni. En það var okkur öllum vel ljóst að Guðrúnu Rósu þótti afar vænt um okkur samstarfsfólk sitt. Það var svo augljóst í öllum hennar orðum og gjörðum. Hún tók þátt í því sem við starfsfólkið gerðum saman og hún lagði sjálf til ýmislegt sem gerði vinnustaðinn notalegri í þeim tilgangi að stuðla að aukinni vellíðan okkar í vinnunni. Hún kom oft og iðulega í skólann á öðrum tímum dags en vinnutímanum sínum, til að athuga hvort ekki hefði verið nægilega vel þrifið, eða til að ræða eitthvað annað tengt starfinu, eða bara til að heilsa upp á okkur og athuga hvernig við hefðum það. Oft kom Guðrún Rósa með blóm í vasa og setti á afgreiðsluborð skrifstofunnar og ef henni þótti við hafa gert eitthvað fyrir hana, kom hún og þakkaði fyrir

sig og gaukaði að okkur einhverju fallegu sem hún setti inn á kennarastofu. Einnig kom hún oft á tónleika hjá skólanum og sýndi með því nemendum og kennurum áhuga og stuðning. Þetta er væntumþykja. Guðrún Rósa var búin að berjast við krabbamein um árabil og meinið mætti þar hörðum andstæðingi. Oft leit út fyrir að hún ynni þá baráttu en inn á milli voru dekkri tímar. Guðrún Rósa átti auðvelt með að ræða veikindi sín við okkur og með því sýndi hún okkur mikið traust sem við erum þakklát fyrir. Við, samstarfsfólk Guðrúnar Rósu, kveðjum hana með miklum söknuði og trega. Við trúum því að henni líði betur núna og eigum minningar um traustan, heilsteyptan og tilfinningaríkan samstarfsmann og vin. Við vottum Hólmari og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð. Þau eiga um sárt að binda, en við vitum að almættið vakir yfir þeim og veitir þeim styrk. f.h. starfsfólks Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, Haraldur Árni Haraldsson skólastjóri

Þarftu að auglýsa? Hafðu samband í síma 421 0001 eða á fusi@vf.is

lt

Til sölu RenaulT TRaffic – ÁRg. 2004 ekinn 150.000 – ÁseTT veRð 950.000 fRekaRi upplýsingaR í síma 421-2000


19

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012

REYKJANESBÆR

Skimun á lestrargetu nemenda A

ð undanförnu hafa kennsluráðgjafar á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar og sérkennarar grunnskólanna skimað

lestrargetu nemenda í 9. bekk með greiningartækinu LOGOS. Niðurstöður skimunarinnar eru nýttar til að bregðast við ef þær

sýna að lestrargetu er ábótavant hjá einstaka nemendum svo hægt sé að aðstoða þá, kennara þeirra og foreldra, við að bæta lestrarfærnina. Tryggja þarf að nemendur með lestrarerfiðleika fái aðstoð og geti nýtt sér þá tækni og búnað sem í boði er sem sífellt verður betri og fjölbreyttari. Einnig stendur til að skima lestrargetu nemenda í 6. bekk í nóvember og í 3. bekk í janúar 2013.

Þarftu að auglýsa? Hafðu samband í síma 421 0001 eða á fusi@vf.is

FRAMBOÐ

Silja sækist eftir 2. sæti Framsóknar S

ilja Dögg Gunnarsdóttir, skjalastjóri og aðstoðarmaður framkvæmdastjórnar HS Orku og varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti Framsóknarf lok ksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. Silja Dögg er 38 ára gömul, þriggja barna móðir, búsett í Innri-Njarðvík og gift Þresti Sigmundssyni. Silja Dögg er sagnfræðingur að mennt og hefur m.a. starfað sem

blaðamaður, ritstjóri, lögreglumaður, kennari og rekið eigið fyrirtæki. Silja Dögg tók sæti sem varamaður í bæjarstjórn Reykjanesbæjar vorið 2010 og er í stjórn Atvinnuog hafnaráðs Reykjanesbæjar. Silja Dögg hefur hefur verið í stjórn Framsóknarfélags Reykjanesbæjar síðan 2010 og á sæti í miðstjórn Framsóknarflokksins og í landsstjórn Landssambands Framsóknarkvenna.

Á tali hjá Listasafni Reykjanesbæjar L

augardaginn 6. október stóð Listasafn Reykjanesbæjar fyrir málþingi í tengslum við yfirstandandi sýningu, Allt eða ekkert, samsýningu 55 listamanna af Suðurnesjum, leikra og lærðra. Markmiðið með málþinginu var að velta fyrir sér hlutverki, stöðu og stefnu Listasafnsins og tengslum og hlutverki safnsins í samstarfi við grasrótina á svæðinu sem er í miklum blóma.

Valgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri menningarsviðs og forstöðumaður safnsins, var með stutta framsögu þar sem hún stiklaði á skyldum safnsins, stefnu, markmiðum og því umhverfi sem opinbert safn starfar í. Í pallborði sátu einnig Hermann Árnason formaður Félags myndlistarmanna í Reykjanesbæ, Björgvin Björgvinsson formaður Ljósops félags áhugaljósmyndara og Inga Þórey Jóhannsdóttir sem sæti á í listráði safnsins. Tæplega 30 manns, margir úr hópi sýnenda, tóku þátt í umræðunum sem voru bæði gagnlegar og áhugaverðar. Helstu niðurstöður voru

þær að mikill vilji er hjá safninu til að styðja vel við grasrótina og vera í góðu samstarfi við menningarfélögin í bænum. Sömuleiðis kom fram að listiðkendur á svæðinu eru almennt mjög ánægðir með þá aðstöðu sem bærinn hefur skapað þeim og telja hana með því besta sem gerist á landinu. Hér fái allir aðstöðu til að leggja stund á sína listsköpun án þess að þurfa að greiða fyrir það dýrum dómum. Þátttakendur lýstu líka mikilli ánægju með þetta framtak Listasafnsins að standa fyrir samsýningunni Allt eða ekkert og kölluðu eftir frekari forgöngu Listasafnsins í að hrinda verkefnum í þessum dúr af stað.

Forsetakosningar 30. júní 2012 Þjóðaratkvæðagreiðsla, laugardaginn 20. október 2012

ALMENNAR RAFLAGNIR Viðhald og breytingar á raflögnum Nýlagnir og endurnýjun raflagna Rafmagnstöflur Tölvu- og símalagnir Sjónvarpslagnir Dyrasímar Ekkert sem tilheyrir raflögnum og rafmagni er okkur óviðkomandi. Við leggjum áherslu á fagmannleg vinnubrögð og góða umgengni. Við komum á staðinn, gerum úttekt á raflögnum og ástandi þeirra og veitum ráðleggingar um framhaldið.

Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram laugardaginn 20. október nk., samkvæmt þingsályktunartillögu Alþingis frá 24. maí 2012, sem ályktaði að efna til ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Atkvæðagreiðslan fer fram á grundvelli laga nr. 91/2010 um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna. Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Sandgerðisbæjar í Vörðunni, Miðnestorgi fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar. Kosið er í Grunnskólanum í Sandgerði. Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki. Kjörstaður opnar kl. 9:00 og lokar kl. 22:00. Á kjördag mun kjörstjórn hafa aðsetur í Grunnskólanum í Sandgerði og í síma 899-6317. Kjörstjórn Sandgerðisbæjar

Brekkustíg 16 - Reykjanesbæ - S: 612-5552, 611-5552 og 421-4426


Af m

æl i

20

fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR

GERÐASKÓLI 140 ÁRA

Gaf tvær milljónir króna til tölvukaupa G

erðaskóli í Garði fagnaði 140 ára afmæli í síðustu viku með afmælishátíð í skólanum. Fjölmargir gestir heiðruðu skólann með nærveru sinni, ávörp voru flutt, mikið sungið og þá var boðið upp á heimabökuð muffins. Í tilefni af þessum merku tímamótum skólans færði bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs Gerðaskóla að gjöf tvær milljónir króna til að efla tölvubúnað skólans.

Á myndinni hér að ofan tekur Skarphéðinn Jónsson, skólastjóri, við gjafabréfi frá Jónínu Hólm, forseta bæjarstjórnar Garðs.


21

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012

PISTILL

An

na

Hamingjuhornið

Kjøp din egen sjokolade neste gang! g var á ráðstefnu í Osló og stóra systir sem hefur verið búsett í É Noregi í 25 ár hafði bent mér á kaffihús

Ökumenn við skóla til sóma

L

ögreglan á Suðurnesjum hélt uppi eftirliti með umferð við grunnskóla og leikskóla í umdæminu í vikunni. Allir þeir ökumenn sem áttu leið um viðkomandi götur voru í öryggisbeltum og enginn ók yfir hámarkshraða. Ástand var því í góðu lagi að öllu leyti nema því að nokkrir foreldrar höfðu lagt bílum sínum uppi á gangstétt við einn leikskólann og skapað þar með óþægindi fyrir gangandi vegfarendur. Lögregla ræddi við ökumennina, sem þetta gerðu og lofuðu þeir að láta þetta ekki koma fyrir aftur.

Mannlaus bíll með kerru rann tugi metra

M

annlaus sendibifreið með kerru aftan í lagði af stað frá útgerðarfyrirtækinu Vísi í Grindavík fyrir helgi, rann niður bratta brekku, áfram yfir götu og hafnaði á grjótgarði við höfnina. Bílnum hafði verið lagt á bílastæði við Vísi og rann hann tugi metra áður en grjótgarðurinn stöðvaði ferð hans. Af förum eftir hann að dæma hafði hann rétt sneytt fram hjá ljósastaur í brekkunni. Farmur var á kerrunni sem hann dró. Minni háttar skemmdir urðu á bíl og kerru.

við Karl Johans götu þar sem fengist gott kaffi og ljúffengt, handgert konfekt. Fátt betra eftir langan vinnudag en að fá sér góðan latte og súkkulaði svo ég fór að ráðum hennar. Þegar ég kom inn á þetta tiltekna kaffihús var setið við öll borð og eitt andartak hélt ég að ég þyrfti að sleppa þessari óskastund. Ég ákvað að athuga hvort ég gæti ekki tyllt mér hjá einhverjum öðrum og spurði mann á miðjum aldri sem sat einn við fjögurra manna borð hvort ég mætti setjast þar og hann hélt það nú. Fór svo og pantaði mér latte og fimm konfektmola og bað þjónustustúlkuna að velja bestu molana og pakka þeim þannig inn að ég gæti tekið þá með mér. Því næst ANNA LÓA fór ég á salernið en þegar ég kom ÓLAFSDÓTTIR til baka var búið að setja kaffiSKRIFAR bollann og molana á borðið en ekki voru þeir innpakkaðir eins og ég bað um heldur á penum kökudisk á miðju borði. Norskan mín skilst þá ekki betur en þetta, hugsaði ég með mér en gat ekki beðið eftir að smakka þetta yndisfagra góðgæti sem var greinilega búið að nostra við og var því ekkert að amast yfir þessu. Ég kom mér vel fyrir með latteið og súkkulaðið fyrir framan mig og hugsaði mér gott til glóðarinnar. Valdi mér einn konfektmola og svei mér þá ef það var ekki rétt sem var alltaf verið að segja, súkkulaði er allra meina bót. Vellíðan helltist yfir mig og ég fann hvernig spennan minnkaði í líkamanum. Þá gerðist nokkuð ótrúlegt,

þegar maðurinn sem sat við borðið gerir sér lítið fyrir og fær sér einn konfektmola. Já, já, tekur einn rándýran, handgerðan mola og treður upp í sig eins og ekkert sé sjálfsagðara. Mér krossbrá því fyrir utan dónaskapinn þá var ég búin að ákveða að ég fengi mér kannski tvo mola og restina tæki ég með mér og ætti til góða. En nú voru bara þrír molar eftir og ég fann ergelsið og spennuna hellast yfir mig. Ég horfði á manninn hvössum augum um leið og ég fékk mér annan mola og var að vona að samviskubitið mundi buga hann og ég fengi afsökunarbeiðni. Ég hugsaði ,,þið náðuð kannski völdum yfir Íslendingum árið 1262 en þú skalt ekki halda að þú komist upp með þetta núna“. En hann var svellkaldur og horfði bara á mig á móti og fékk sér ANNAN mola og ég missti andlitið. Einn moli eftir og manninum að takast að eyðileggja fyrir mér þessa stund sem lofaði svo góðu í byrjun. Ég beið ekki boðanna og hrifsaði síðasta molann og tróð honum upp í mig, enn með þann fyrri upp í mér. Með úttroðinn munninn af súkkulaði horfði ég á manninn með manndrápsaugum sem hafði þau áhrif að hann stóð upp og settist við annað borð. Þessi dónalegi Norðmaður var gjörsamlega búinn að eyðileggja ,,minn-tíma“ þennan daginn og ég sá fyrir mér að næsti pistill mundi fjalla um ,,norska yfirganginn“ sem hefur verið viðloðandi síðan á Sturlungaöld. Óforskammaðir Norðmenn sem veigra sér ekki við að valta yfir allt og alla, stela konfektmolum af saklausum Íslendingum af því þeir eru svo nískir á olíuauðinn sinn. Hvað næst, kaffið manns drukkið og slefað ofan í vatnsglasið! Hann mátti bara ekki komast upp með þetta. Hvernig átti ég að bregðast við - mér fannst þjóðarstoltið liggja að veði.

Ég fylgdist með manninum og sé þegar þegar þjónninn kemur með stóran bolla af heitu súkkulaði með rjóma og setur fyrir framan hann og pollrólegur hrærir hann í bollanum eins og ekkert glæpsamlegt hafi átt sér stað. Ég finn að ég er búin að fá nóg, tek saman dótið mitt og labba í átt að útidyrunum. Áður en þangað var komið stoppaði ég við borð mannsins, beygi mig niður að honum, horfi djúpt í augu hans, hrifsa af honum skeiðina og hræri með látum í bollanum svo slettist upp úr. Tók mér síðan gúlsopa þannig að ég fann hvernig rjómaskeggið lagðist á efri vörina og súkkulaðitaumarnir láku niður munnvikin og sagði svo ákveðin: kjøp din egen sjokolade neste gang! Hann horfði á mig skelfingu lostinn en ég lét það ekki á mig fá. Ég labbaði örugg í fasi sem fulltrúi íslensku þjóðarinnar, í gegnum kaffihúsið í átt að dyrunum, og skilaboðin voru skýr: svona nokkuð látum við Íslendingar ekki bjóða okkur. Ekki laust við að ég titraði örlítið þegar ég nálgaðist útidyrnar og brá þegar það er kippt í annan handlegginn og á móti mér stendur þjónninn og segir: du må ikke glemme din sjokolade! Ég missti máttinn í fótleggjunum á sama tíma og hann rétti mér fallega innpakkað konfektið! Það þýddi þá að konfektmolarnir á borðinu voru í eigu....... tilgi meg, alle mine norske venner! Þangað til næst – gangi þér vel. Anna Lóa Fylgstu með mér www.facebook.com/Hamingjuhornid

ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA UM TILLÖGUR STJÓRNLAGARÁÐS AÐ FRUMVARPI TIL STJÓRNSKIPUNARLAGA, 20. OKTÓBER 2012 Með vísan til 5. gr. laga um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, nr. 91/2010, sbr. ályktun Alþingis 24. maí 2012, fer fram ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur Stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga og tiltekin álitaefni þeim tengd, 20. október nk. Kjörskrá liggur frammi á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, 2. hæð. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar. Kjörfundur verður í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2. Kjörstaður opnar kl. 10:00 og lokar kl. 22:00. Yfirkjörstjórn hefur aðsetur í grunnskólanum á kjördag. Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Yfirkjörstjórn Grindavíkurbæjar

Ló a


22

fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa okkar,

Garðars Brynjólfssonar, Krossholti 15, Keflavík. Helga Auðunsdóttir, Anna Guðrún Garðarsdóttir, Sigurjón Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

SVIÐAVEISLA KEFLAVÍKUR Körfuknattleiksdeild Keflavíkur mun reiða fram alvöru sviðaveislu föstudaginn 19. október nk. í félagsheimili Keflavíkur að Sunnubraut 34. Kortið prýðir vatnslitamynd eftir Stefán Jónsson

Sviðaveislan hefst kl. 19:30 en húsið opnar 18:30. Framreidd verða bæði heit og köld svið ásamt dýrindis meðlæti. Látum ekki þjóðlegan herramannsmat íslenskra forfeðra vorra framhjá okkur fara! Verð: kr. 3500,- á mann. Nánari upplýsingar og miðapantanir gefa: Ólafur Ásmundsson - s: 664 0375 - oli@velao.is Birgir Már Bragason - s: 618 5155 - biggi@keilir.net

Minningarsjóður Vilhjálms Ketilssonar

2

Minningarkortin fást hjá Víkurfréttum, Krossmóa 4a, Reykjanesbæ. VÍKURFRÉTTIR Opið alla virka daga kl. 09-17

SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0000 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS

GÆLUDÝR

ÓSKAST Íbúðarhúsnæðið óskast. Við erum par með 2 börn sem óskum eftir 4 herbergja íbúð eða stærri í Keflavík sem fyrst, helst í Heiðarskólahverfinu. Höfum meðmæli ef þess er óskað. Upplýsingar í síma 869 2112.

Hundapössun ! Hæ hæ ég heiti Hafrún Júlía og er 9 ára frá því í júlí. Bý í Reykjanesbæ. Ég er til í að passa hunda ef þið eruð í vandræðum með pössun. En hundurinn má ekki vera stór af því að þá ræð ég ekki við hann. Ef þú vilt hringja í mig er síminn hjá mér 774 5266 og ég tek 500 kr á klukkutíma. En ef hundurinn er óþægur tek ég 1000 kr.

Íbúð óskast. 3 - 4ra herbergja íbúð óskast til leigu í Keflavík eða Njarðvík. Er með hund. Uppl. í síma 691 9847.

Þjónustumiðstöðin Nesvöllum

ÞJÓNUSTA

• Bingó • Gler-, keramik- og leirnámskeið • Handavinna • Leikfimi - dans- boltaleikfimi. • Línudans • Félagsvist • Tölvuklúbbur • Bridge • Hádegismatur • Síðdegiskaffi • Bókaútlán

Vagnageymslur í vetur hj á A l e x fe rð a þj ónu s tu n n i, k r. 7 5 0 0 , - l e n g d a r m e t e r i n n tímabilið. Uppl. alex@alex.is eða 421 2800 á skrifstofutíma. Geymsluhúsnæði Geymslupláss fyrir tjaldvagna, fellihýsi og húsbíla til leigu. Upplýsingar í síma 861 9339. Vandaðar gelneglur! Jóa heiti ég og er naglafræðingur. Er að gera gelneglur í heimahúsi í Njarðvík. Bókanir/ upplýsingar í síma 772 8296.

Vikan 11. - 17. okt. nk.

Léttur föstudagur 12. október nk. Dönsum saman á Nesvöllum föstudaginn 12.október n.k. kl. 14:00 Línudanshópur frá Glóð í Kópavogi kemur í heimsókn ásamt Óla Geir danskennara. Allir velkomnir Nánari upplýsingar í síma 420 3400 eða á www.nesvellir.is/

Heimsáskorun KFUM og KFUK Þ ann 13. október 2012 munu milljónir manna á vegum Heimssambands KFUM og KFUK koma saman til þess að setja nýtt heimsmet. Heimsáskorun KFUM – 2012 „Hoop Springs Eternal“ er viðburður skipulagður þann 13. október 2012 til þess að fagna starfi KFUM og KFUK um allan heim á sviði valdeflingar ungs fólks. KFUM og KFUK félög munu skipuleggja viðburði þar sem að öllum þátttakendum og fleirum verður boðið að skjóta á körfu. Viðburðirnir verða fjölmargir á þúsundum staða um allan heim. Viðburðurinn hefst í Nýja-Sjálandi kl. 8.00 á staðartíma að miðnætti sama dag á Hawai. Þennan dag verða fjöl-

mörg samfélög og fjöldi menningarheima tengd saman í gegnum beina veflýsingu og samfélagsmiðla. Við hér á Íslandi tökum vitanlega virkan þátt í þessum stórmerkilega viðburði og verðum með dagskrá á Akureyri, í Reykjanesbæ, Vestmannaeyjum, Hveragerði, Borgarnesi og í Reykjavík. Hér í Reykjanesbæ ætla bæði börn og unglingar ásamt leiðtogum sínum að vera áberandi á ýmsum stöðum hér í bæ og bjóða fólki að taka þátt í átakinu. Hver hópur hefur útbúið sitt eigið körfuboltaspjald eftir sínum hugmyndum og með því kynna bæði KFUM og KFUK starfið og mikilvægi íþrótta og hreyfingar.

n Björgvin Jónsson skrifar:

Hver stal ungmennafélagsandanum? Þ

egar ég var yngri heyrði ég reglulega talað um ungmennafélagsandann. Þá var átt við félagsskap þar sem fólk kom saman og vann sjálfboðavinnu. Ég man eftir því að fótboltavöllurinn í mínum gamla heimabæ Garðinum, var alfarið reistur í sjálfboðavinnu, eins og fótboltavöllurinn í Njarðvík. Allir lögðu sitt af mörkum og skipti engu hvort um var að ræða fyrirtæki, konur eða karla. Hvað er ungmennafélagsandi? Ég hafði ekki heyrt þetta orð í háa herrans tíð fyrr en mágur minn stofnaði Júdódeild Njarðvíkur þar sem ungmennafélagsandinn átti að vera í hávegum hafður. Hugsjónin höfð að leiðarljósi, eins og áður fyrr. Hann vildi byggja upp deild sem gæti orðið sjálfbær og þar sem öll börn og ungmenni hefðu jafnan rétt til að stunda íþróttina, hver sem staða þeirra eða foreldra/ forráðamanna væri. Hugmyndin var sú að þjálfarar, foreldrar og börn ynnu saman að því að skapa íþróttafélag, byggða á þessum margumrædda ungmennafélagsanda. En hvaðan er hugtakið ungmennafélagsandi komið? Á sambandsþingi Ungmennafélags Íslands árið 2005 var ungmennafélagsandinn skilgreindur á þennan hátt: Ég er heiðarleg(ur) og hlýði samvisku minni skynsamlega. Ég treysti öðrum og mér er treystandi. Ég veit að ég hef ekki alltaf rétt fyrir mér, þess vegna hlusta ég og læri. Ég ber virðingu fyrir mér og öðrum og vil að aðrir beri virðingu fyrir mér. Ég anda að mér hreinu lofti, borða hollan mat og hreyfi mig reglulega svo að mér líði vel. Ég nota ekki vímuefni. Ég tek þátt, mér og öðrum til ánægju. Ég stefni á sigur, samgleðst með sigurvegurunum og get sett mig í spor þeirra sem verða undir. Ég lifi lífinu lifandi og nýt þess sem á vegi mínum verður. Ég vil deila með öðrum og skila því sem lífið lánar, bættu til komandi kynslóða. Í kjölfarið var Björn B. Jónsson, þáverandi formaður UMFÍ spurður nánar um skilgreiningu ungmennafélagsandans og hvernig hann fléttist inn í nútímann. Hans svar var svona: “Ungmenna-

félagsandinn hefur aldrei virkað betur en í dag, í nútímaþjóðfélaginu, þegar alls staðar leynast hættur fyrir ungt fólk. Andinn virkar þannig að mörg þúsund ungmennafélagar vinna sjálfboðavinnu um allt land og svo virðist sem ungmennafélögin séu tilbúin til að leggja mikið á sig til að unga fólkið fái sín tækifæri.” Allir sitja við sama borð Þjálfarar og stjórn Júdódeildar Njarðvíkur hafa undanfarið ár lagt á sig mikla vinnu til að gefa öllum börnum og ungmennum á svæðinu tækifæri til að iðka júdó. Ákveðið var að innheimta ekki æfingagjöld og hefur deildin því alfarið verið rekin af styrktaraðilum og sjálfboðavinnu. Við hjá Júdódeild UMFN höfum ítrekað verið spurð út í hvenær við ætlum að fara að rukka inn æfingagjöld. Því er auðsvarað. Svo lengi sem þjálfarar, foreldrar og styrktaraðilar vinna saman að því að halda deildinni gangandi mun Júdódeild UMFN halda áfram að þjálfa börn og unglinga án endurgjalds. Við viljum blása lífi í ungmennafélagsandann á ný og gefa öllum börnum í Reykjanesbæ og nágrenni tækifæri til að þjálfa íþrótt sem eflir líkamlegt, félagslegt og andlegt heilbrigði. Með því að innheimta engin æfingagjöld sitja ALLIR við sama borð. Júdódeild UMFN mun því leyfa börnum og unglingum að æfa án endurgjalds eins lengi og mögulegt er. Áframhaldandi uppbygging deildarinnar Við megum ekki gleyma grunngildum ungmennafélagshreyfinganna. Ég tel að það hafi aldrei verið mikilvægara en nú að standa vörð um íþróttaiðkun barna og unglinga og byggja yngstu kynslóðinni þannig bjartari framtíð. Íþróttir og félagsstörf eru frábær forvörn gegn sjúkdómum, fíkn og félagslegum kvillum og því nauðsynlegt að möguleiki barna og unglinga til að stunda íþróttir sé ekki skertur vegna fjárhagslegra stöðu foreldra. Það eru vissulega mjög margir sem sinna óeigingjörnu starfi fyrir hin ýmsu félög og deildir en alltaf vantar gott fólk til starfa við góð málefni. Ég vil því hvetja alla Suðurnesjamenn að taka höndum saman og finna ungmennafélagsandann hjá sér aftur. Björgvin Jónsson, formaður Júdódeildar UMFN

Vin sæ lt

PÓSTKASSINN

Mest

lesið á vf.is

síðustu 7 sólarhringa

Fréttir | 04. október 2012

Barn tekið úr barnavagni - fannst í næsta húsgarði

Mannlíf | 08. október 2012

Gaf tvær milljónir króna til tölvukaupa

Fimmtudagurinn 14. apríl 2011

Fréttir | 08. október 2012

Með 29 ketti á heimilinu

Íþróttir | 04. október 2012

Guðjón Þórðar rekinn frá Grindavík

Vefur Víkurfrétta var 19. mest lesni vefurinn á Íslandi í liðinni viku!


23

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012

SPORTIÐ

Stu tta r

Keflavíkurstúlkur fóru illa með granna sína

K

eppnistímabilið í körfuknattleik er komið í fullan gang eftir langt undirbúningstímabil. Heil umferð var hjá konunum í gærkvöldi þar sem Grindavík og Njarðvík mættust í Röstinni og Keflavík fór í heimsókn í Vesturbæinn og lék gegn KR. Blaðið var farið í prentun áður en úrslit í leikjunum lágu fyrir en finna má úrslit á vf.is. Síðastliðinn laugardag mættust Keflavík og Grindavík í Toyotahöllinni og fóru heimastúlkur illa með granna sína úr Grindavík. Lokaúrslit urðu 87-47 fyrir Keflavíkurstúlkum sem byrja keppnistímabilið af krafti.

Tekur Milan Stefán við Grindavík?

H

n Jón Axel Guðmundsson er ungur og efnilegur körfuboltakappi í Grindavík og ætlar að feta í fótspor Guðmundar Bragasonar, föður síns:

„Ég er miklu betri en pabbi“ Þ

að er hrikalega gaman að vera kominn í meistaraflokk og að fá að spila. Sverrir Þór (Sverrisson, þjálfari Grindavíkur) sagði við okkur ungu leikmennina fyrir tímabilið að við ættum tækifæri á að spila okkur inn í liðið og ég var staðráðinn í að gera það,“ segir Jón Axel Guðmundsson, ungur körfuknattleiksmaður í liði Grindvíkinga sem skoraði 4 stig í leiknum gegn Keflavík í Dominos-deildinni á mánudag.

Sp o

rti

ð

Þessi 16 ára gamli leikmaður á ekki langt að sækja hæfileikana því hann er sonur Guðmundar Bragasonar, fyrrum Íslandsmeistara, landsliðsmanns og fyrirliða Grindavíkur. Jón Axel þykir mikið efni og hefur verið í yngri landsliðum Íslands, nú síðast í U-16 ára liði. Hann hefur æft af kappi á undirbúningstímabilinu og unnið sér inn spilatíma hjá Íslandsmeisturunum. Jón Axel lék í um 10 mínútur í leik gegn Keflavík í 1. umferð Dominos-deildarinnar síðastliðinn mánudag þar sem Grindvíkingar höfðu betur 80-95. JónAxelviðurkennir að það sé smá pressa á s ér að st and a sig vel enda sonur körfuboltagoðsagnar í Grindavík. „Jú, það er örugglega smá pressa á mér. Ég reyni samt að hugsa ekkert um þetta. Pabbi er líka búinn að hjálpa mér talsvert og segir mér að spila ákveðið. Það er mjög gaman að vera núna farinn að spila á móti þekktum leikmönnum í deildinni.“ Jón Axel fékk hæðina í arf frá föður

sínum og er í dag 192 cm að hæð. Hann vonast til að ná pabba gamla í hæð, sem er yfir tveir metrar á hæð, áður en langt um líður. „Vonandi gengur það eftir. Við pabbi erum samt mjög ólíkir leikmenn. Ég spila sem bakvörður og er mun meira fyrir utan teig. Það er ekki spurning að ég er mun fjölhæfari og miklu betri leikmaður en pabbi,“ segir Jón Axel og hlær. „Pabbi segir að hann sé ennþá betri og við tökum oft 1-á-1 heima. Það er mjög gaman að spila á móti honum.“ Eftir frábæran vetur í fyrra þá eru miklar væntingar hjá Grindvíkingum um að fylgja Íslandmeistaratitlinum eftir með fleiri titlum á nýhöfnu tímabili. Íslandsmeistararnir byrja vel og unnu nýverið Meistarakeppni KKÍ. Breytingar hafa orðið á liðinu fyrir tímabilið í ár og er ætlast til að ungir og uppaldir leikmenn komi sterkir inn af bekknum. „Sverrir hefur trú á okkur ungu strákunum og ætlar að gefa okkur tækifæri í vetur. Við þurfum að skila inn framlagi þegar við fáum sénsinn. Tímabilið byrjar vel og það er frábært að byrja á útisigri gegn Keflavík. Við unnum þar í fyrra og urðum að lokum Íslandsmeistarar. Vonandi endurtökum við leikinn.“

ávær orðrómur er uppi um að Milan Stefán Jankovic muni taka við knattspyrnuliði Grindavíkur sem féll úr Pepsi-deild karla í haust. Stjórn Grindavíkur nýtti sér ákvæði í samningi við Guðjón Þórðarson að afstöðnu tímabili og sagði upp launaliði samningsins. Báðir aðilar þurfa því að setjast aftur að samningaborðinu en afar ólíklegt er að Guðjón haldi áfram störfum sem þjálfari liðsins enda var árangur liðsins í sumar afleitur og sá versti í sögu liðsins í efstu deild. Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, vildi ekkert tjá sig um þjálfaramál í samtali við Víkurfréttir en sagði að tíðinda væri að vænta í lok mánaðarins. Milan Stefán var aðstoðarþjálfari Guðjóns í sumar og hefur þjálfað yngri flokka félagsins. Hann er reyndur þjálfari og gerði Keflavík meðal annars að bikarmeisturum árið 2004.

Heil umferð hjá körlunum í kvöld

H

eil umferð verður í Dominos-deild karla í kvöld og verða Suðurnesjaliðin í eldlínunni. Keflvíkingar fara í heimsókn til Stjörnunnar í Garðabænum og Grindvíkingar taka á móti Snæfelli á heimavelli sínum. Njarðvíkingar gera sér svo ferð í Borgarnes og leika á móti Skallagrími. Allir leikir hefjast kl. 19:15. Grindavík og Njarðvík unnu góða sigra í 1. umferð. Grindvíkingar lögðu granna sína í Keflavík í Toyota-höllinni, 80-95, og á sama tíma gerði Njarðvík sérdeilis góða ferð í Þorlákshöfn og lagði heimamenn í Þór í framlengdum leik, 82-84.

Ennþá sveifla í kylfingum

Þ

rátt fyrir að komið sé fram í október er ennþá líf í kylfingum hér á Suðurnesjum. Allir golfvellir Suðurnesja eru ennþá opnir fyrir umferð og nýta margir sér það til að leika á blíðveðursdögum sem þó fer fækkandi. Golfklúbbur Grindavíkur, Golfklúbbur Sandgerðis og Golfklúbbur Suðurnesja munu hafa velli sína opna eins lengi og veður leyfir í haust og eru opin mót hjá klúbbunum um helgar. Áhugasömum kylfingum er bent á heimasíður golfklúbbanna.


auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 vf.is

Fimmtudagurinn 11. október 2012 • 40. tölublað • 33. árgangur

Barn tekið úr barnavagni n Fannst í næsta húsgarði

L

ögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um að barn sem var sofandi úti í barnavagni hefði verið tekið úr vagninum. Atvikið átti sér stað í Reykjanesbæ á milli kl. 13 og 14 á föstudaginn fyrir rúmri viku. Barnið, 14 mánaða gömul stúlka, hafði verið sofandi úti í barnavagni við íbúðarhús í Reykjanesbæ. Þegar huga átti að barninu reyndist það ekki vera í vagninum og eftir skamma leit heyrðist í barninu sem

reyndist vera í húsagarði við næsta hús en milli húsanna er 80-90 cm há girðing. Ekkert virtist ama að barninu. Allt bendir til þess að óviðkomandi hafi tekið barnið úr barnavagninum og farið með það yfir í garðinn við næsta hús. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum sem lítur það mjög alvarlegum augum og hvetur til sérstakrar aðgæslu með börnum við þessar aðstæður í ljósi málsins.

Óviðræðuhæfur eftir sveppaát

K

arlmaður á þrítugsaldri reyndist vera algjörlega út úr heiminum af völdum sveppaáts þegar lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af honum. Maðurinn var staddur við hafnarvogina í Keflavík þegar lögregla varð hans vör. Hann reyndist vera í alvarlegu vímuástandi og óviðræðuhæfur. Lögreglumönnum tókst þó að greina af því sem hann reyndi að segja að hann væri búinn að borða mikið af sveppum. Maðurinn var færður á lögreglustöð og látinn sofa úr sér. Síðan var tekin af honum skýrsla, þar sem hann viðurkenndi sveppaátið, og var frjáls ferða sinna að því búnu.

Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00 Tímapantanir í síma 426 8540

Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00 Frjáls mæting

FIMMTUDAGSVALS VALUR KETILSSON SKRIFAR

H

Stigið í vænginn

ann vaknaði við kunnuglegt lag á Bylgjunni. Á ókunnum stað. Raggi Bjarna og Jón Jónsson sungu Geira Sæm lagið „Froðan“ af einstakri hljómþýðu. Við hlið hans lá kona sem hann hafði hitt fyrr um kvöldið. Naktir líkamar þeirra lágu saman umvafðir röndóttum sængurverum. Ekki beint ósýnilega gyðjan eins og laglínan úr viðtækinu. Þau höfðu hist í Stapanum og látið vel að hvort öðru. Dansað saman inn í nóttina. Í hópi kunningja og vina. Allir voru að skemmta sér. Þau stigu í vænginn hjá hvoru öðru

H

ún var fráskilin fjögurra barna móðir. Eiginmaðurinn fyrrverandi hafði flust búferlum í leit að ævintýrum. Atvinnutækifærin í Noregi toguðu í hann eins og svo marga aðra iðnaðarmenn. Henni leiddist einveran og ákvað að fara með vinkonunum á ballið. Þráði að vera ein af stelpunum, jafnvel þó henni hafi gengið illa að koma því fyrir á undanförnum árum. Átti erfitt með að fá barnapíu sem hægt var að treysta á. Oftar en ekki hafði hún þurft að fara fyrr heim, þar sem heimilið hafði verið undirlagt af unglingum sem hópast höfðu í partíið hjá heimasætunni. Óvarin fyrir undirheimum og óþjóðalýð.

Skeyttu engu um börnin, sem voru henni allt. Lífsins ljós. Afi og amma fóru blessunarlega með þau í sveitina að þessu sinni. Henni létti að vita af þeim í öruggum höndum.

H

afði séð hann endrum og eins í samkvæmum og fannst nærvera hans góð. Þekkti hann af góðu einu. Þau ræddu heima og geima og áhugamál hvors annars. Börnin komu oftar en ekki við sögu í samræðunum. Ræddu skólann og íþróttirnar. Henni fannst gott að fá athyglina frá honum enda engir aðrir litið við henni frá skilnaðinum. Hún hafði gefið sig alla að uppeldi barnanna og tileinkað lífið fjölskyldunni. Henni leið þó ekki vel innra með sér og depurðin ruglaði hana í ríminu. Hún bauð honum heim. Eitt glas.

Þ

að hvarflaði ekki að henni að þetta færi svona. Hún vaknaði óróleg um morguninn og sá að hann var farinn. Það síðasta sem hún mundi, var að hún lá í örmum hans og fékk koss á ennið. Umvafin hlýju og mýkt. Anganin hans lagði enn um herbergið. Þá rann það upp fyrir henni hvað hafði gerst. Engu að síður nagaði samviskan hana og hún grúfði sig í koddann. Hét því að láta slíkt ekki henda sig aftur. Aldrei.

FRÉTTAVAKT VÍKURFRÉTTA Í SÍMA 898 2222 VAKTSÍMI ALLAN SÓLARHRINGINN

GERÐU BÍLINN KLÁRAN FYRIR VETURINN

ÁD

EKK BÝÐ JAHÓT GEY ST ÞÉ EL I N1 RA M GEG A DEK Ð KIN NV GJA ÆGU LDI

FYRSTA FLOKKS VETRARDEKK Á FRÁBÆRU VERÐI OG FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTA

HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA N1 REYKJANESBÆ | GRÆNÁSBRAUT SÍMI 440 1372

WWW.DEKK.IS

Meira í leiðinni


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
40.tbl by Víkurfréttir ehf - Issuu