Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Stjarnan frá Njarðvík
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001
-draumasumar Ingvars.
bls 18
Ógn vegna Ebólu tekin alvarlega á HSS bls 12
vf.is
F IMMTUDAGUR INN 2 3 . O KTÓ BE R 2 0 14 • 4 1. TÖLU BLA Ð • 35. Á RGA NGU R
Keflvíkingar kvarta yfir áralöngu ójafnræði í húsnæðismálum
Heitasta íþróttin á Suðurnesjum er hafin á ný
– Arfur frá Njarðvíkurbæ kemur í bakið á Reykjanesbæ. Sjá nánar á bls. 8
Keflvíkingurinn Guðmundur Jónsson í baráttunni við Stjörnumenn. VF-Eyþór Sæmundsson
K
Gríðarlegur árangur í læsi með hjálp smáforrits -nokkrir skólar í Reykjanesbæ verið að forprófa smáforritið Froskaleikina, til undirbúnings læsi. Mikill árangur mældist í Háaleitisskóla. „Við stóðum fyrir átaki á vegum fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar fyrir tveimur árum. Mér tókst að mæla þennan árangur í Háaleitisskóla og fyrsti árgangurinn sem prufukeyrði efnið og aðferðafræðina „Lærum og leikum með hljóðin“ náði gríðarlegum árangri,“ segir Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur, en undanfarið hafa nokkrir skólar í Reykjanesbæ verið að forprófa smáforritið Froskaleikina, til undirbúnings læsi, sem Bryndís gefur út fljótlega í nóvember. Um er að ræða leiki þar sem saga er af froskinum Hoppa sem missir málið eftir að galdrakarl leggur á hann álög. Börn þurfa að leysa ýmsar þrautir með málhljóð og lestrarfærni til að komast í galdrakastalann þar sem þau útbúa töfraseyði sem hjálpar Hoppa að fá málið aftur. „Fyrir skömmu lét ég mæla og meta allar tölurnar, þannig að þetta var ekki bara sýnilegt og heyranlegt, heldur er árangurinn mark-
tækur. Það er mjög ánægjulegt. Þegar hægt er að staðfesta árangur með tölfræði að munurinn er marktækur, er efnið að skila árangri. Bryndís segir forritið undirbúa börnin enn betur undir læsi, bæði á leikskóla- og grunnskólastigi. „Á Íslandi hafa talmeinafræðingar þurft að byggja upp mikið frumkvöðlastarf því engin mælitæki eða próf hafa verið til að meta hvað er að hjá börnum og fullorðnum. Einnig lítið verið til af þjálfunarefni. Það var kominn tími til að okkar rödd heyrðist til að hjálpa til við læsi en á sama tíma erum við að hjálpa börnum að ná betri framburði. Forritið er dýrt fyrir einstaklinga en aðstoð úr skólasamfélagi, sem hefur fangað efnið eins og hér, er afar dýrmæt í allri framþróun með slík verkefni,“ segir Bryndís. Nánar verður fjallað um þetta í Sjónvarpsþætti Víkurfrétta sem frumsýndur er í kvöld á ÍNN og á vf.is.
örfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur krafist þess að henni verði bætt upp það áralanga ójafnræði sem hún telur að hafi ríkt í húsnæðismálum á milli félaganna í Reykjanesbæ. Keflvíkingar benda á að Ungmennafélag Njarðvíkur hafi haft afnot af tvíbýlishúsi við Þórustíg 3 í Njarðvík á þriðja áratug, en það er í eigu Reykjanesbæjar. „Þetta er mjög erfitt mál að leysa fyrir íþróttaog tómstundaráð og engar skyndilausnir í sjónmáli. Ráðið er sammála um að allar íþróttagreinar eigi að sitja við sama borð, en sú spurning hefur auðvitað komið upp hvort bærinn eigi að sjá um gistingarmál fyrir erlenda leikmenn og þjálfara,“ segir Stefán Bjarkason, framkvæmdastjóri íþrótta- og tómstundasviðs Reykjanesbæjar. Sjá nánar á síðu 8 í blaðinu í dag.
Prjónahönnun og smáforrit í Sjónvarpi Víkurfrétta Blaðamenn Víkurfrétta hafa á þessu ári framleitt 30 frétta- og mannlífsþætti frá Suðurnesjum undir nafninu Sjónvarp Víkurfrétta. Þættirnir eru sýndir á fimmtudagskvöldum á sjónvarpsstöðinni ÍNN og einnig í háskerpu á vef Víkurfrétta, vf.is. Í kvöld er 31. þátturinn á dagskrá. Í honum eru þrjú mál skoðuð. Viðtal er við Höllu Benediktsdóttur prjónahönnuð sem er að gera áhugaverða hluti í Danmörku. Við vorum einnig viðstödd opnun tónlistarskóla og bókasafns í Grindavík. Þá er ítarleg um notkun smáforrits í kennslustarfi í Reykjanesbæ. Þátturinn er á ÍNN kl. 21:30 í kvöld.
Allir í
FÍTON / SÍA
Njarðvík-ÍR
einföld reiknivél á ebox.is
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
Ljónagryfjuna í kvöld. Fyrsti heimaleikurinn.
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
KL. 19:15
2
fimmtudagurinn 23. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR
LISTASAFN REYKJANESBÆJAR
LEIKFLÉTTUR
Á sunnudag lýkur sýningu Kristínar Rúnarsdóttur LEIKFLÉTTUR í sýningarsal Listasasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum. Opið 12-17 virka daga, 13-17 helgar. Aðgangur ókeypis.
LJÓSMYNDARINN
JÓN TÓMASSON Vegna fjölda áskorana hefur sýningartíminn verið framlengdur um viku. Allra síðasti sýningardagur, í Bíósal Duushúsa, er sunnudagurinn 26. október. Opið 12-17 virka daga, 13-17 helgar. Aðgangur ókeypis.
VÍKINGAHEIMAR
-fréttir
Strætó skipuleggur samgöngur á Suðurnesjum S
krifað hefur verið undir samning milli Strætó bs. og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Samningurinn felur í sér skipulagningu og framkvæmd almenningssamgangna milli þéttbýliskjarna á Suðurnesjum og tenginu þeirra við höfuðborgarsvæðið. Hlutverk Strætó bs. verður að halda utan um upplýsingar er varða akstur verktaka fyrir S.S.S. Verður það gert með sama fyrirkomulagi og gildir varðandi samninga Strætó við verktaka vegna aksturs á þeirra vegum. Strætó bs. tryggir farþegum á þjónustusvæði S.S.S. aðgang að vögnum í leiðarkerfi strætó á höfuðborgarsvæðinu hafi þeir til þess gild fjargjaldaform eins og þau eru skilgreind af Strætó hverju sinni. Strætó mun veita farþegum upplýsingar og fyrirgreiðslu líkt og öðrum farþegum á höfuðborgarsvæðinu.
-Víkingaskipið Íslendingur -Siglingar norrænna manna -Fornminjar af Suðurnesjum -Örlög guðanna -Söguslóðir á Íslandi Opið 12-17 alla daga. vikingaheimar.is
ROKKSAFN ÍSLANDS
HLJÓMAHÖLL
pósturu vf@vf.is
Gunnar Þórarinsson og Reynir Jónsson framkvæmdastjóri Strætó bs.
Samningurinn tekur gildi 1. janúar 2015 og mun hafa í för með sér mikla samgöngubót fyrir sam-
félagið á Suðurnesjum og bæta tengingu íbúa við höfuðborgarsvæðið.
Heimreiðin ekki á ábyrgð bæjarins – íbúar sendu bæjaryfirvöldum undirskriftir og óskuðu eftir íbúafundi
Í
búar við Hlíðarveg 12-88 í Njarðvík hafa óskað eftir að Reykjanesbær geri við heimreiðar við raðhúsin. Með ósk um þetta fylgdi undirskriftalisti íbúa ásamt skýringum með beiðninni. Íbúarnir óskuðu einnig eftir íbúafundi þar sem svör verði gefin varðandi málið. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hafnar erindinu þar sem heimreiðirnar eru innan lóðamarka raðhúsanna. Framkvæmdastjóra og formanni er jafnframt falið að funda með fulltrúum íbúa og gera grein fyrir málinu.
Kristinn Jakobsson, Framsóknarflokki, flutti tillögu á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í vikunni um að fresta ákvörun í málinu til að freista þess að leysa ágreining er varðar endurnýjun yfirborða á botnlanga við hús. „Enn er mjög á reiki hvort botnlanginn sér hluti af gatnakerfi bæjarins eða hluti lóðar viðkomandi raðhúsa,“ segir í tillögunni sem var felld með tíu atkvæðum gegn atkvæði Kristins.
Velkomin á Rokksafn Íslands
■■ Nokkur störf og heilmiklar framkvæmdir:
Opið 11-18 alla daga rokksafn.is
Stofnfiskur áformar uppbyggingu í Vogum Í
Vogavík, rétt utan við Voga, er fyrirtækið Stofnfiskur hf. með starfsemi sína. Uppistaðan í framleiðslu Stofnfisks eru laxahrogn og fer megnið af framleiðslunni til útflutnings. Fram til þessa hafa höfuðstöðvar skrifstofunnar verið í Hafnarfirði, en nú hyggst fyrirtækið færa þær hingað í Vogavíkina. „Það eru sannarlega góðar fréttir fyrir okkur, hingað færast nokkur störf og uppbyggingunni fylgja heilmiklar framkvæmdir, segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum. Sveitarfélagið hefur nú þegar hafið undirbúningsvinnu að þeim þáttum sem að sveitarfélagniu snúa, en framkvæmdin kallar á breytingu
á aðalskipulagi. „Nú hefur verið gefin út svokölluð skipulags- og matslýsing, sem auglýst hefur verið og er til umsagnar. Ef allt gengur að óskum mun breytingin verða staðfest og þá getur uppbyggingin hjá Stofnfiski hafist með vorinu,“ segir Ásgeir jafnframt í pistli sem hann skrifar í fréttabréf sveitarfélagsins.
Hugmynd Daníels orðin að veruleika – Skilti sett upp við Brú á milli heimsálfa XX„Það er frábært að fá svona hugmyndir frá íbúum og koma þeim í framkvæmd,“ segir Eggert Sólberg Jónsson, verkefnastjóri hjá Heklunni. Eggert sendi Víkurfréttum mynd sem hann tók við Brú á milli heimsálfa. Myndin er af skilti með Daniel Alexanderssyni, 13 ára nema í 8. bekk í Akurskóla, sem kom á framfæri þeirri hugmynd að koma á nýrri hefð; að halda á Brúnni á milli heimsálfa. Hugmyndin sló í gegn og hafa margir látið taka mynd af sér eins og Daníel þegar hann stillti sér upp fyrir föður sinn.
Íbúðalánasjóður svarar ekki Garðmönnum – óskað eftir fundi með sjóðnum og félagsmálaráðherra XXMagnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, hefur sent Íbúðalánasjóði bréf vegna húsnæðismála í Garði. Íbúðalánasjóður á nú 57 eignir í Garði. Engin viðbrögð hafa orðið af hálfu Íbúðalánasjóðs við erindinu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með félagsmálaráðherra og Íbúðalánasjóði. Í bréfinu til Íbúðalánasjóðs er óskað eftir samstarfi og fundi varðandi fjölda ónotaðra íbúða í eigu sjóðsins í Garðinum. Í minnisblaði bæjarstjóra, sem lagt var fyrir bæjarráð í Garði í gær, er einnig fjallað um 7 félagslegar íbúðir í eigu sveitarfélagsins, ástand þeirra og nýtingu. Fyrir liggur að ráðast þarf í viðhaldsframkvæmdir vegna tveggja íbúða.
1 4 - 2 3 5 6 - H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A
Spennandi störf á Keflavíkurflugvelli / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / /
VIÐSKIPTAFULLTRÚI Í VIÐSKIPTADEILD
Isavia óskar eftir metnaðarfullum og snjöllum viðskiptafulltrúa með háskólamenntun sem nýtist í starfi. Á meðal verkefna er auglýsingasala, umsjón með kynningarsvæðum, sölugreiningar og þátttaka í markaðsátökum.
VERKEFNASTJÓRI FARÞEGAÞJÓNUSTU
Isavia óskar eftir kraftmiklum og skipulögðum verkefnastjóra í farþegaþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Á meðal verkefna eru þjónustumælingar, kannanir, umsjón úrbótaverkefna og upplýsingagjöf til farþega. Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
RÚTUBÍLSTJÓRAR
Isavia leitar að starfsmönnum með aukin ökuréttindi til farþegaaksturs á Keflavíkurflugvelli auk annarra starfa, til dæmis umhirðu í kringum flugstöðina, snjómokstur og fleira. Leitað er að kraftmiklum starfsmönnum með lipra og þægilega framkomu. Próf á hópferðabifreið er skilyrði.
Nánari upplýsingar um störfin og umsóknir er að finna á www.isavia.is/atvinna. Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 850 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru umsjón með uppbyggingu og rekstri flugvalla og að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem millilandaflug, auk yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.
4
fimmtudagurinn 23. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-fréttir
Árshátíð
pósturu vf@vf.is Gestir fjöldahjálparstöðvarinnar gæddu sér á matarmikilli kjötsúpu. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Félags eldri borgara á Suðurnesjum
Félag eldri borgara á Suðurnesjum heldur árshátíð sína laugardaginn 1. nóvember 2014 á Ránni. Eyjólfur Eysteinsson, formaður FEBS flytur ávarp. Veislustjóri Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri. Sigurbjörg Eiríksdóttir á léttu nótunum. Die Jodlerinnen skemmta. Atriði úr „Með ryk í auga“ með Leikfélagi Keflavíkur. Happdrætti með fjölda glæsilegra vinninga. Húsbandið leikur fyrir dansi.
Matseðill: Fordrykkur. Logandi lamb á teini með gratineruðum kartöflum, gufusoðnu grænmeti og rauðvínssósu. Jarðaberjaterta með súkkulaði og rjóma. Miðasala og borðapantanir á Nesvöllum föstudaginn 24. október frá kl.15:30 - 18:00 (Tökum ekki kort)
■■Rauði krossinn á Suðurnesjum:
Miðaverð er kr. 6500.
Undirbúa móttöku allt að 1500 Sunnlendinga
Skemmtinefnd FEBS
BÓKMENNTAKVÖLD Í BÓKASAFNINU Í GARÐI
R
BÓKMENNTAKVÖLD Í BÓKASAFNINU Í GARÐI
auði krossinn á Suðurnesjum gerir ráð fyrir að taka á móti allt að 1500 Sunnlendingum í fjöldahjálparstöðvar á Suðurnesjum komi til eldgoss í Bárðarbungu. Rauði krossinn undirbýr nú mögulega rýmingu á Suðurlandi þar sem tekið yrði á móti 13.500 íbúum af Suðurlandi. Notast verður við skóla á Suðurnesjum og húsnæði á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Þrjár fjöldahjálparstöðvar voru opnaðar á Suðurnesjum sl. sunnudag í landsæfingu Rauða kross Íslands. Sjálfboðaliðar RKÍ stóðu þar vaktina rétt eins og um alvöru neyðarástand væri að. Á síðustu vikum höfum við sem búum á þessari eyju í Norður-Atlantshafi verið rækilega minnt á kraft óútreiknanlegra náttúruafla. Hættan er ætíð til staðar fyrir alla sem hér eru staddir, þar sem neyð gæti orðið raunin á örskammri stundu.
Myndavélavöktun skilar árangri
23. október kl. 20:00 Suðurnesjakonan Kristrún Guðmundsdóttir, bókmenntafræðingur, skáld og kennari ætlar að lesa upp úr verkum sínum og ræða við viðstadda um þau, sem mörg hver tengjast Suðurnesjunum. Auk þess mun hún lesa nokkur ljóð úr nýrri ljóðabók sem kemur út á næsta ári. Bókasafnið í Garði er til húsa í Gerðaskóla.
Dósasel fékk vefsíðu í afmælisgjöf
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
– Ýmsar viðurkenningar veittar af sama tilefni.
N
Viðburðirnir eru samstarfsverkefni almenningsbókasafnanna á Suðurnesjum „Kynning á bókmenntaarfinum“ og styrktir af Menningarráði Suðurnesja.
Leturgerð: Letter Gothic STD Bold
vinalegur bær
C 100 M 0 Y 16 K 11
PANTONE 3135
C 0 M 15 Y 70 K 50
PANTONE 4505
HÚÐLÆKNIR Er með móttöku í Keflavík að Suðurgötu 2 (fyrir ofan Lyf og heilsu ) Tímabókanir í síma 4213200.
Helga Hrönn Þórhallsdóttir Sérgrein: Húðsjúkdómar
Skapist alvöru neyð er mikilvægt fyrir alla landsmenn, og gesti okkar einnig, að vita hvert á að sækja hjálp og hvar er hægt að komast í öruggt skjól. Nokkuð stöðugur straumur fólks var á fjöldahjálparstöðvarnar á sunnudag þar sem boðið var upp á matarmikla kjötsúpu. Sögðu Rauðakrossfélagar að æfingin væri góður undirbúningur fyrir hugsanlega móttöku Sunnlendinga á flótta undan gosi í Bárðarbungu.
ý heimasíða Dósasels var opnuð í tilefni af 37 ára afmæli þess fyrir skömmu. Jóhann Kristbjörnsson, eigandi Skissu ehf., hannaði síðuna og gaf Dósaseli. Ívar Egilsson opnaði síðuna og meðal viðstaddra var þingmaðurinn Ásmundur Friðriksson. Við sama tilefni færði Steindór Gunnlaugsson hjá Dynjandi heildverslun, starfsfólki Dósasels vinnufatnað, þ.e.a.s. vesti og sólgleraugu.
Velunnurum félagsins voru færðar þakkir. Guðnýju Óskarsdóttur, sem gaf afrakstur af sölu málverka eftir bróður hennar heitinn, Árna Óskarsson. Þá voru Gunnari Björnssyni og Alexöndru Mark Hauksdóttur veitt viðurkenningarskjöl fyrir áheit vegna 10 og 21 km hlaups í Reykjavíkurmaraþoni og Bóa hjá Duus voru færðar þakkir fyrir meðlætið sem var í boði. Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi Bárðarson við tilefnið.
XXFyrir nokkrum misserum var ákveðið að ráðast í tilraunaverkefni með Securitas um uppsetningu öryggismyndavélar við innakstur að þéttbýlinu í Vogum. Að fenginni reynslu var ákveðið að ráðast í kaup á slíkum búnaði. Nú hefur verið gengið frá uppsetningu hans og tengingum. Um búnað sem þennan gilda strangar reglur, m.a. þarf leyfi frá Persónuvernd til uppsetningarinnar. Myndavélarnar geyma upptökur af umferð um veginn inn í bæinn í tiltekinn tíma, en einungis er heimilt að nota þær upplýsingar af lögreglu og í löggæslutilgangi. Frá því að öryggismyndavélin var fyrst sett upp hefur ekkert innbrot verið skráð í Vogunum af lögreglunni, svo vonandi hefur þessi búnaður tilætlaðan fælingarmátt, segir í frétt frá Sveitarfélaginu Vogum.
Öryggi í gæðum neysluvatns sé haft í fyrirrúmi XXMengunar varð vart í vatnsbóli Sveitarfélagsins Voga í upphafi septembermánaðar sl. Mengunin hvarf á nokkrum dögum. Bæjarráð Voga fjallaði um greinargerð Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja á síðasta fundi sínum. Í greinargerðinni er fjallað um aðgerðir bæði til skemmri og lengri tíma. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga álítur mikilvægt að málefni vatnsveitu og öryggi í gæðum neysluvatns séu höfð í fyrirrúmi. Þá óskar sveitarfélagið eftir viðræðum við HS Veitur um framtíðarlausn í málefnum neysluvatns, þ.e. öflunar, miðlunar og dreifingar þess í sveitarfélaginu.
CHEVROLET DAGURINN
Benni
VETRARSKOÐUN CHEVROLET - LAUGARDAGINN 25. OKTÓBER
ÓKEYPIS VETRARSKOÐUN
Veturinn er á næsta leiti og því ætla starfsmenn Bílabúðar Benna að leggja sig sérstaklega fram um að auka öryggi og ánægju Chevrolet eigenda með vetrarskoðun, sértilboðum og glaðningi fyrir alla fjölskylduna – án endurgjalds.
ÓKEYPIS ÞJÓNUSTA
Fyrir utan veglega vetrarskoðun bjóðum við ókeypis áfyllingu á rúðuvökva og afhendum gjafakort hjá Bón og þvottastöðinni.
FRÁBÆR TILBOÐ
Sértilboð og kynningar á bílavörum. Sölumenn nýrra og notaðra bíla verða í samningsstuði og bjóða í reynsluakstur. Það verða einnig tilboð á nýjum dekkjum fyrir veturinn.
Við hvetjum Chevrolet eigendur til að koma og njóta þess sem við höfum upp á að bjóða. Við stöndum vaktina á milli kl. 11:00 og 16:00 á laugardaginn í Reykjanesbæ og Reykjavík.
Allir Chevrolet eigendur sem koma í vetrarskoðun fá gjafakort hjá Bón & þvottastöðinni
FACEBOOK LEIKUR Kíktu í heimsókn, líkaðu síðuna og vertu með. Þann 1. nóvember drögum við út einn vinningshafa úr vinahópnum sem fær 70.000 kr. innborgun á harðskeljadekk frá Toyo í verðlaun.
Nánari upplýsingar á benni.is Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330
Reykjavík Tangarhöfða 8 Sími: 590 2000
6
fimmtudagurinn 23. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-ritstjórnarbréf Olga Björt Þórðardóttir skrifar
Árangur hugsjónastarfs
-viðtal
pósturu hilmar@vf.is
■■Fyrirhugað guðshús að Minna-Knarrarnesi:
Kirkja í 19. aldar byggingarstíl – segir kirkjuna hluta að uppbygging í ferðaþjónustu.
Rannsóknir á heilastarfsemi hafa staðfest að gott atlæti og örvun fyrstu árin hefur mikilvæg áhrif á lestrarfærni og námsgetu síðar á lífsleiðinni. Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur, hefur um árabil byggt upp frumkvöðlastarf í þróun aðferða til að hjálpa til við læsi. Meðal fjölda hugarfóstra Bryndísar er smáforritið „Lærum og leikum með hljóðin“ sem notað er í skólum og leikskólum víða um land. Aðferðir sem Bryndís notar í þróun forrita af þessu tagi eru byggðar á áratuga reynslu hennar sem talmeinafræðingur og í starfi með börnum og foreldrum þeirra. Fyrir tveimur árum stóð fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar fyrir átaki í læsi. „Mér tókst að mæla þennan árangur í Háaleitisskóla og fyrsti árgangurinn sem prufukeyrði efnið og aðferðafræðina „Lærum og leikum með hljóðin“ náði gríðarlegum árangri,“ segir Bryndís í viðtali í nýjasta tölublaði og Sjónvarpsþætti Víkurfrétta, en undanfarið hafa nokkrir skólar í Reykjanesbæ verið að forprófa smáforritið Froskaleikir Hoppa, til undirbúnings læsi, sem Bryndís gefur út fljótlega í nóvember. Fyrir skömmu lét Bryndís mæla og meta allar tölur í mælingunni, þannig að árangurinn varð ekki bara sýnilegur og heyranlegur, heldur einnig marktækur. „Það er mjög ánægjulegt. Þegar hægt er að staðfesta árangur með tölfræði að munurinn er marktækur, er efnið að skila árangri,“ segir Bryndís og bætir við að forritið undirbúi börnin enn betur undir læsi, bæði á leikskóla- og grunnskólastigi. Þegar Bryndís byrjaði að starfa sem talmeinafræðingur á sínum tíma var lítið til af þjálfunarefni og engin mælitæki eða próf til að meta læsi hjá börnum og fullorðnum. Hún er þakklát skólasamfélaginu fyrir að hafa tekið svo vel í efnið sem hún hefur hannað, það sé grundvöllurinn fyrir framþróuninni - og árangrinum sem hlýst. Á lifandi og skemmtilegan hátt sinnir Bryndís mikilvægu hugsjónastarfi. Það sést glöggt í áhugasömum andlitum barnanna, foreldranna og kennaranna sem hún hittir í starfi sínu.
Járnsmiðir!
B
irgir Þórarinsson hefur óskað eftir því að fá að byggja 40 fermetra kirkju á landi við heimili sitt að Minna-Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd. Eins og við greindum frá í síðasta blaði hefur Birgir sent inn formlega kvörtun til bæjaryfirvalda í Vogum vegna málsmeðferðar skipulags- og byggingafulltrúa og umhverfis- og skipulagsnefndar. Bæjaryfirvöld í Vogum segja málið í eðlilegum farvegi og í dag til meðferðar hjá umhverfis- og skipulagsnefnd sveitarfélagsins. „Kirkjan verður byggð úr timbri í íslenskum 19. aldar byggingarstíl. Hún er lítil, eða 40 fermetrar, og mun taka 30 manns í sæti, svokölluð bændakirkja,“ segir Birgir Þórarinsson í samtali við Víkurfréttir. Birgir segir kirkjubygginguna vera hluta að uppbyggingu í ferðaþjónustu, sem rekin er að Minna Knarrarnesi. „Það hefur verið nokkuð um að brúðhjón hafi gist hjá okkur og við höfum fengið fyrirspurnir um hvort að það væri hægt að gifta sig hér. Það má því segja að þetta hafi verið kveikjan að hugmyndinni að byggja kirkju, auk þess er ég áhugamaður um guðfræði og hinn gamla íslenska byggingarstíl“.
Erlendir ferðamenn eru almennt mjög áhugasamir um litlar íslenskar sveitakirkjur, þær vekja athygli. „Sveitarfélagið Vogar hefur hins vegar því miður ekki verið eins áhugasamt um þessi áform okkar. Það eru vonbrigði þar sem ég er sannfærður um að byggingin verður sveitarprýði. Það er komið meira en eitt ár síðan við sóttum um byggingarleyfi og það er ekki enn komið. Þar sem ég þekki til eins og á Suðurlandi eru sveitarfélög almennt mjög áhugasöm um uppbyggingu í ferðaþjónustu og leggja sig fram í þeim efnum,“ segir Birgir. Birgir kvartaði til bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga vegna málsmeðferðarinnar og er m.a. ósáttur við vinnubrögð skipulags- og byggingafulltrúa. „Ég er þeirrar skoðunar að stjórnsýslulög hafi verið brotin í málinu. Bæjarráð bókaði að byggingin samræmdist ekki aðalskipulagi og landnotkun. Þrátt fyrir að ég hafi undir höndum tvö bréf frá umhverfis- og skipulagsnefnd, sem segja að byggingin samræmist aðalskipulagi og frávik frá landnotkun séu óveruleg. Það er greinilegt að hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri gerir á bæjarskrifstofunni. Það sjá það allir að þetta er afleit stjórnsýsla. Bæjar-
stjóri svarar auk þess ekki athugasemdum mínum. Ég vil þó taka það fram að nýr formaður umhverfis- og skipulagsnefndar, sem er skelegg kona, er áhugasöm um verkefnið og hefur þokað málinu áfram, sem ég er þakklátur fyrir. Það er loks komið í grenndarkynningu,“ segir Birgir Þórarinsson í samtali við blaðið.
ÍAV óskar eftir að ráða járnsmiði til starfa. Um er að ræða verkefni á suðurnesjum. Umsóknum skal skila á vef ÍAV, www.iav.is
Íslenskir aðalverktakar hf. | Höfðabakka 9 110 Reykjavík | s. 530 4200 | iav.is
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001 vf.is
SÍMI 421 0000
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
-23% Kræsingar & kostakjör
VERÐ- ! A J G N E SPR
lambabógur kryddaður Kílóverð Verð áður 1.298,-
999,-39% NautaluNdir erlendar Kílóverð Verð áður 3.789,-
-27% 2.766,-20% gæS heil 4 kg Kílóverð Verð áður 1.650,-
1.485,-30%
2.798,-
1.382,-45%
-35% gæSabriNgur Tilvalin jólasTeik Kílóverð Verð áður 3.498,-
lambalæri kryddað Kílóverð Verð áður 2.266,-
SvíNaSNitSel í raspi Kílóverð Verð áður 1.994,-
1.296,-
Nettó bjúgu 6 sTk 1.260 g paKKaverð Verð áður 898,-
494,-
-41% rauðSprettuflök m/roði ódýrT fyrir heimilið Kílóverð Verð áður 998,-
kjúkliNgaluNdir 700 g paKKaverð Verð áður 1.694,-
699,-30%
HeimiliSjógúrt ms 1 líTri lítraverð Verð áður 267,-
999,-
240,-
-50% kaNilSNúðar bakað á sTaðnum styKKjaverð Verð áður 198,-
139,-
víNberjatveNNa/víNber 500 g box paKKaverð Verð áður 398,-
199,-
arla buko SmuroStur skinku og sinneps styKKjaverð Verð áður 598,-
496,-
CaStello oStur gyllTur 150g styKKjaverð Verð áður 549,-
456,-
Tilboðin gilda 23. - 26. okt 2014 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
8
fimmtudagurinn 23. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-fréttir
pósturu vf@vf.is
Arfur frá Njarðvíkurbæ kemur í bakið á Reykjanesbæ
Þórustígur 3 í Njarðvík.
- Keflavíkingar vilja sitja við sama borð og Njarðvíkingar
K
örfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur krafist þess að henni verði bætt upp það áralanga ójafnræði sem hún telur að hafi ríkt í húsnæðismálum á milli félaganna í Reykjanesbæ. Keflvíkingar benda á að Ungmennafélag Njarðvíkur hafi haft afnot af tvíbýlishúsi við Þórustíg 3 í Njarðvík á þriðja áratug, en það er í eigu Reykjanesbæjar. Njarðvíkurbær neyddist á sínum tíma til að kaupa fyrst Þórustíg 1 í Njarðvík vegna stækkunar Njarðvíkurskóla og síðar Þórustíg 3 af sömu ástæðu. Eigendur húsanna kvörtuðu yfir því að skólinn væri svo nálægt húsunum að ekki sæist til sólar nánast allan daginn. Bæjarstjórn Njarðvíkur ákvað árið 1993 að afhenda UMFN efri hæð hússins að Þórustíg 3 og skátafé-
laginu Víkverja neðri hæðina og bílskúrinn. Skátafélagið Víkverjar og Heiðabúar hafa síðan þá sameinast undir merkjum Heiðabúa og létu neðri hæðina nýlega eftir til UMFN en halda enn bílskúrnum fyrir ýmis konar búnað. Körfuknattleiksdeild UMFN var með aðstöðu á efri hæðinni í nokkur ár fyrir skrifstofur fyrir framkvæmdastjóra deildarinnar. Þegar nýja félagsaðstaðan í íþróttamiðstöð Njarðvíkur var útbúin var skrifstofunum á Þórustíg 3 breytt í herbergi fyrir erlenda leikmenn, karla og kvenna. Körfuknattleiksdeild UMFN hafi þannig nýtt húsið í starfsemi sinni og ekki þurft að leigja íbúðir úti í bæ sem kollegar þeirra hjá Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hafi þurft að gera. Stefán Bjarkason,
framkvæmdastjóri íþrótta- og tómstundasviðs Reykjanesbæjar, segir í samtali við Víkurfréttir að húseignin sé í eigu Fasteignar en Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hafi endurnýjað nánast allt innandyra. Stefán segir að aðrar deildir innan UMFN, eins og júdódeildin, hafi óskað eftir gistiaðstöðu fyrir þjálfara og svo eru mjög margar deildir innan Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, sem eru með annað
■■Sameiginleg aðstaða skólabarna, Iðan, opnuð í Grindavík:
Iðandi miðstöð mennta og lista I
ðan, sem hýsir bókasafn, félagsmiðstöð, grunnskóla og tónlistarskóla í Grindavík, var opnuð formlega fyrir viku, að viðstöddu fjölmenni. Nafn Iðunar varð fyrir valinu í nafnasamkeppni þar sem tillaga Eggerts Sólbergs Jónssonar bar sigur úr býtum. Margrét Rebekka Gísladóttir, forstöðumaður Bókasafns Grindavíkur og Inga Þórðardóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Grindavíkur, klipptu á borða í sameiginlegu anddyri miðstöðvarinnar. Þá voru nokkrir nemendur tónlistarskólans með tónlistaratriði í húsakynnum skólans og upplestur var í bókasafninu fyrir gesti og gangandi.
Lekamálið upplýst í Vogum XXUndanfarið hefur verið leitað að leka í vatnsveitunni í Vogum. Nú hefur náðst árangur í þeirri leit en bilunin fannst í lögn sem er nærri skrúðgarðinum Aragerði. Búið er að lagfæra lekann, næstu skref eru að ganga úr skugga um með þrýstings- og rennslismælingum að ekki sé um fleiri leika að ræða. Vonir standa einnig til að við þessa lagfæringu verði aukinn og betri þrýstingur á kalda vatninu í bænum, segir í fréttabréfi Sveitarfélagsins Voga.
hvort leikmenn eða þjálfara sem vantar gistiaðstöðu. „Þetta er mjög erfitt mál að leysa fyrir íþrótta- og tómstundaráð og engar skyndilausnir í sjónmáli. Ráðið er sammála um að allar íþróttagreinar eigi að sitja við sama borð, en sú spurning hefur auðvitað komið upp hvort bærinn eigi að sjá um gistingarmál fyrir erlenda leikmenn og þjálfara,“ segir Stefán. Íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar mun skoða málið við
Aðstaða að Hafnargötu 2 óviðunandi XXGolfklúbbur Suðurnesja og Púttklúbbur Suðurnesja telja núverandi aðstöðu í æfingahúsnæði við Hafnargötu 2 í Keflavík óviðunandi. Meðal annars lekur þak hússins. Klúbbarnir hafa óskað eftir aðstoð Reykjanesbæjar við að finna framtíðarhúsnæði og hefur íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar tekið vel í erindið og mun skoða málið.
50% aukning á milli ára – Enn fjölgar farþegum í Vogastrætó XXAlls ferðuðust 588 manns með Vogastrætó í september, en strætóinn ekur milli mislægu gatnamótanna við Reykjanesbraut og að Gamla Pósthúsinu í Vogum. Stöðug fjölgun farþega hefur verið allt frá upphafi og því ljóst að Vogabúar kunna vel að meta þessa þjónustu. Heildarfarþegafjöldinn fyrstu níu mánuði ársins er rúmlega fjögur þúsund, sem eru fleiri farþegar en allt árið 2013. Miðað við sömu mánuði ársins 2013 er aukningin árið 2014 milli ára 49%. Starfsemi Vogastrætó hófst sem tilraunaverkefni árið 2011 og hefur nú öðlast fastan sess í starfsemi sveitarfélagsins.
Rafbílar sýndir á Suðurnesjum
Ljósmyndasýningu Jóns Tómassonar að ljúka
L
jósmyndasýningunni „Ljósmyndarinn Jón Tómasson, - aldarminning“ og vakti hvað mesta athygli á Ljósanótt, lýkur á sunnudag en hún er í bíósal Duus-húsa í Reykjanesbæ.
Fjölmargir hafa sótt sýninguna en þeim gefst m.a. kostur á því að setja inn upplýsingar um myndir Jóns en vitað er að margir Suðurnesjamenn búa yfir vitnesku um fjölmargar þeirra.
XXÞrjá tegundir rafbíla verða sýndir á sérstakri bílasýningu við húsakynni Kaffitárs í Njarðvík nk. laugardag. Fyrirtækið Even sem er í eigu Gísla Gíslasonar mun sýna Tesla, Renault Zoe og Nissan Leaf rafbíla frá kl. 12 til 15. Gísli segir að sprenging hafi orðið í sölu rafbíla nú í haust. Samstarf við Norðmenn í innflutningi á rafbílum komi viðskiptavinum til góða en Norðmenn eru mjög stórtækir í innflutningi á rafbílum. Gísli segir að stór kostur við rafbíla sé lítið viðhald og ekki þurfi sífellt að fara með bílinn í kostnaðarsama
gerð fjárhagsáætlunar næsta árs. Nokkur umræða var um málið á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sl. þriðjudag. Þar voru menn sammála um að málið væri það gamalt eða frá síðustu bæjarstjórn Njarðvíkur, að erfitt væri að taka sérstaklega á því en sögðu einnig að alla tíð í tuttugu ára tíð núverandi bæjarstjórnar hafi alltaf verið lögð áhersla á að gæta jafnræðis í afgreiðslu mála til hinna ýmsu félaga.
skoðun. „Við erum búnir að vera að selja rafbíla núna í fimm ár og á þeim tíma höfum við einu sinni þurft að skipta um öryggi í einum bíl. Við höfum einfaldlega aldrei þurft að fara með bíl í viðgerð, sem kalla mætti svo,“ sagði Gísli.
Þjónustudagur Chevrolet á laugardag XXLaugardaginn 25. október fer fram árlegur þjónustudagur Chevrolet. Chevrolet eigendur á Suðurnesjum eru hvattir til að koma með bílinn sinn til Bílabúðar Benna við Njarðarbraut 9 í Reykjanesbæ. Þar munu starfsmenn standa vaktina, milli kl. 11:00 og 16:00, og bjóða ókeypis vetrarskoðun, sértilboð og glaðning fyrir alla fjölskylduna.
Borga lán með láni – og Reykjanesbær að veði XXStjórn Reykjaneshafnar samþykkti á síðasta fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 56.000.000 kr. til 10 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Er lánið tekið til endurfjármögnunar afborgana lána Reykjaneshafnar hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Til tryggingar skilvísri og skaðlausri greiðslu láns þessa, ásamt vöxtum, verðbótum og kostnaði stendur einföld óskipt ábyrgð eigenda sem er Reykjanesbær.
Vantar neyðarsíma og ílát XXReykjaneshöfn hefur fengið bréf frá Landvernd í tengslum við Bláfánaeftirlit í smábátahöfninni í Gróf í Reykjanesbæ. Í bréfinu eru tvö atriði tilgreind sem þarf að laga fyrir næsta tímabil Bláfánans til að skilyrði verði uppfyllt. Neyðarsíma vantar við höfnina og ílát fyrir þrjár tegundir endurvinnanlegs sorps. Athugasemdir Landverndar voru ræddar á síðasta fundi atvinnu- og hafnarráðs Reykajnesbæljar og ákveðið að skoða málið frekar.
TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST JEPPA ERUM MEÐ NOKKRA DACIA DUSTER DÍSIL ÁRGERÐ 2013 Á TILBOÐI Eldsneytisnotkun frá 5,3 l/100 km* Fjórhjóladrifnir, ríkulega búnir og beinskiptir með extra lágum gír.
ENNEMM / SÍA / NM65133
/
*Miðað við uppgefnar tölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri
Yfirfarnir af umboði og í verksmiðjuábyrgð.
Verð frá 2.780 þús. kr.
Dacia bílar eru framleiddir af Renault og Nissan í Evrópu.
Tökum notaða bíla upp í.
Upplýsingar um bílana veita sölumenn GE bíla í síma 420 0400 / gebilar@gebilar.is
10
fimmtudagurinn 23. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-viðtal
pósturu olgabjort@vf.is
Halla Benediktsdóttir
er þekktust undir nafni hönnuðarins Halla Ben. Halla hefur verið að gera góða hluti við að kynna íslenska ull í Danmörku, þar sem hún býr ásamt eiginmanni sínum og kvennalandsliðsþjálfaranum, Hrannari Hólm. Halla var stödd á landinu fyrir skömmu og hélt námskeið í Myllubakkaskóla og hjá MSS. Hún sagði Víkurfréttum frá draumum sínum sem hún hefur heldur betur látið rætast.
■■Hönnuðurinn Halla Ben lætur drauma sína rætast í Danmörku:
Komst á pall á tískuviku í París - Halla Ben hefur skapað sér sérstöðu með vörur úr íslenskri ull í Danmörku. Hún er líklega fyrsta manneskjan af Suðurnesjum sem hannar flík sem kemst á sýningarpall á tískuviku í París. Halla starfar nú með skærustu stjörnu Dana í hönnunarbransanum. Hefur skapað sér sérstöðu „Um leið og þú hefur skapað þér einhverja sérstöðu þá er auðveldara að finna þig. Þegar maður gúglar ‘íslensk ull í Damnörku’ kemur nafn mitt fljótt upp. Ég hef komist þangað sem ég vil vera,“ segir Halla, sem er „freelance“ hönnuður og starfar með hönnuðum sem ráða hana í ákveðin verkefni. „Merkilegast er að ég hef fengið tækifæri til að vinna með hönnuði sem heitir Anne Sofie Madsen sem er rísandi stjarna í Danmörku. Hún er að gera annað en flestir aðrir og það gerir hana sérstaka. Frábært fyrir konu frá Íslandi að fá tækifæri til að vinna með henni.“ Halla kynntist Anne Sofie í hönnunarnámi sem hún lauk síðasta vetur og var prjón stór hluti af lokaverkefni Höllu. Anne Sofie spurði hana hvort hún gæti ekki búið til peysu eins og að búið væri að leysa upp hluta af henni. „Ég fór heim og gerði 20-30 alls kyns prufur út frá myndinni sem hún lét mig fá. Ég hafði prjónað kraga sem er með sérstökum þræði í og prófaði að prjóna bút og blanda þessum þræði, glow in the dark, inn í. Þegar Anne Sofie sá það sagði hún: Þetta er komið!“ Peysan komst á pall í París Peysan átti aldeilis eftir að vekja athygli því hún komst alla leið á sýningarpall á tískuviku í París fyrir skömmu. „Ég er líklega fyrsta manneskjan af Suðurnesjum sem á flík á sýningarpalli á þessari tískuviku. Ég gerði mér ekki almennilega grein fyrir því að peysa sem ég gerði væri að fara þangað fyrr en ég sá myndir. Ég hugsaði með mér að ég hefði nú átt að skella mér og mér
stóð það alveg til boða. Ég áttaði mig bara ekki á hversu merkilegt þetta var og ég er langelst í hópi Anne Sofie. Næst skelli ég mér til Parísar því ég hef fulla trú á að við verðum þar aftur,“ segir Halla ákveðin. Kennir Dönum að nota ull Líf Höllu tók algjöra u-beygju þegar hún flutti til Kaupmannahafnar fyrir fimm árum. Hún er menntuð verkgreinakennari og kennir börnum í Hróarskeldu íslensku einu sinni í viku. Auk þess að vera prjónahönnuður er Halla prjónaráðgjafi. „Hlutirnir breytast og allt í einu er maður farinn að fást við það sem maður er góður í og hefur ákveðna sérstöðu. Þar er ég með íslensku ullina. Eitt af markmiðum mínum hefur verið að kenna Dönum að vera í ull. Mér hefur tekist það. Ég stóð að stórum prjónaviðburði í haust þar sem tólf aðilar fá Íslandi komu og kynntu sínar vörur. Þarna var bæði fræðsla og sala og þetta sló alveg í gegn og verður aftur að ári,“ segir Halla og bætir við að hún reyni sífellt að fá fólk til að koma við ullina og sýna því fram á að hægt er að vinna með hana á alla kanta. „Hún stingur en hún er ódýr og það er vel hægt að mýkja hana.“ Skartgripir úr gúmmíslöngum Eitt af því sem Halla nýtti tímann í þegar hún dvaldi hér á landi fyrir skömmu í haustfríi sínu var að halda námskeið fyrir verkgreinakennara á Suðurnesjum í Myllubakkaskóla. „Það er mjög danskt að endurnýta hjólaslöngur og ég hef lært að búa til skartgripi úr þeim. Nú er komið í tísku að hjóla á Íslandi og tilvalið að nýta slöngurnar,“ segir Halla.
Laugardaginn 25. okt. kl. 12-15 Kaffitár Reykjanesbær
Tesla
Zoe
Leaf
iPhone 6 fylgir öllum seldum rafbílum á sýningunni SÉRFRÆÐINGAR Í RAFBÍLUM
490 9000 EVEN.IS
12
fimmtudagurinn 23. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-viðtal
pósturu hilmar@vf.is
■■Sjúkraflutningamenn Brunavarna Suðurnesja:
Verjast Ebólu í sérstökum hlífðarbúningum - búa sig undir komu fyrsta Ebólu-sjúklingsins til Keflavíkurflugvallar
S
júkraflutningamenn hjá Brunavörnum Suðurnesja (BS) fá í þessari viku sérstaka búninga til að klæðast þegar takast þarf á við hugsanlega Ebólu-smitaða einstaklinga. Það er hlutverk sjúkraflutningamanna BS að flytja veika flugfarþega úr vélum sem lenda á Keflavíkurflugvelli á sjúkrahús. Beðið hefur verið eftir þessum búningum í nokkrar vikur en erfitt er að fá þá þar sem eftirspurn er mikil. Ebóla hefur verið mikið í fréttum að undanförnu og fréttir berast af því að smitaðir séu í flugvélum vestur um haf. Á hverjum degi fer gríðarlegur fjöldi flugvéla um íslenska flugstjórnarsvæðið og á meðan Ebólu-smituðum fjölgar þá aukast möguleikar á að flugvél með sýktan og veikan farþega þurfi að lenda á Keflavíkurflugvelli. Líkurnar á því að komið verði með veikan farþega til Íslands eru hins vegar litlar en möguleikinn er fyrir hendi. Taka með sér lækni frá HSS um borð Fulltrúar frá Brunavörnum Suðurnesja hafa átt nokkra fundi undanfarið með viðbragðshópi vegna Ebólu. Þar hefur verið farið yfir verkferla. Samkvæmt því skipulagi sem liggur fyrir þá kemur það í hlut sjúkraflutningamanna frá Brunavörnum Suðurnesja að sækja sjúklinga um borð í flugvél og flytja þá á sjúkrahús. Samkvæmt fyrirliggjandi skipulagi er gert ráð fyrir að upplýsingar berist frá áhöfn flugvélarinnar um ástand farþega. Sjúkraflutningamenn BS munu taka með sér lækni frá
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) sem mun greina sjúklinginn. Samkvæmt verkferlinu sem unnið verður eftir er gert ráð fyrir Sigurður Skarphéðinsson, varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja. VF-mynd: Hilmar Bragi að flytja sjúkling beint á Landspítala læknisembættið er að leggja til í þessari viku. Um er að ræða en hafa ekki viðkomu á HSS, eins og gert er í dag þegar fluglokaðan búning með andlitsmaska og hlífðargleraugum. vélum er snúið til Keflavíkurflugvallar með veika farþega. Í skipulaginu er gert ráð fyrir að flugvélar með sjúklinga sem Hingað til hefur það ekki verið venjan að læknar fari um eru veikir af Ebólu noti flugstæði á svokölluðu austursvæði borð í flugvélarnar en breyting verður á nú, þegar grunur um Keflavíkurflugvallar. Þar verði hinn veiki fluttur um borð í Ebólu-smit er til staðar. sjúkrabíl en flugvélin taki svo eldsneyti og haldi ferðalagi sínu áfram og haldin verði skrá yfir farþega sem voru næst hinum Hafa viðkomustaði sem fæsta veika eða komust í snertingu við hann. Undanfarið hafa ýmsar sviðsmyndir verið skoðaðar og velt - Hafa starfsmenn Brunavarna Suðurnesja rætt þetta? Hvernupp viðbrögðum við þeim. Þannig er m.a. gert ráð fyrir því ig líst ykkur á að takast á við svona verkefni? að farþegi sem verið hefur á áhættusvæði í Afríku gæti verið „Við erum bundnir þeirri skyldu að sinna sjúklingum hvaðan í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og veikst þar. Markmið allra aðsem þeir koma en að sjálfsögðu velta menn þessu fyrir sér gerða er að hafa viðkomustaði sjúklings eins fáa og mögulegt og það var nú bara síðast í nýliðinni viku sem það lenti hér er og að eins fáir og mögulegt er þurfi að komast í snertingu flugvél með farþega sem hafði blæðandi magasár og uppköst. við hinn veika. Það fær mannskapinn til að hugsa um málið og fylgjast með Að sögn Sigurðar Skarphéðinssonar, varaslökkviliðsstjóra þessu,“ segir Sigurður í samtali við Víkurfréttir. Brunavarna Suðurnesja, verða sjúkraflutningamenn og læknir klæddir sérstökum hlífðarbúningum sem Land-
Ljós og hiti
■■ Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja undirbúnir fyrir Ebólu:
Ebólu-sýktir ekki fluttir á HSS – „Menn taka ógnina alvarlega,“ segir framkvæmdastjóri lækninga.
SHA-207 Vinnuljóskastari á telescope fæti 400W ECO pera
5.690
SHA-218-28E Vinnuljóskastari ECO perur 2x400W tvöfaldur á fæti
6.890
Rafmagnshitablásari 2Kw 1 fasa Rafmagnshitablásari 2Kw
2.190
6.990
SHA-0203 Vinnuljóskastari m handf 400W ECO pera 1,8m snúra T38 Vinnuljós
3.490
Rafmagnshitablásari 3Kw 1 fasa
8.990
5.290
Rafmagnshitablásari 5Kw 3 fasa
12.990
Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
+ www.vf.is
83% LESTUR
T
öluverð undirbúningsvinna hefur átt sér stað, m.a. á vegum sóttvarnalæknis, og fundir hafa verið haldnir með viðbragðsaðilum á svæðinu. Þar hafa komið að lögregla, sjúkralið, Isavia og fleiri aðilar og menn hafa verið að stilla saman strengi. Nú þegar eru til verklagsreglur fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) og einnig Flugstöð Leifs Eiríkssonar ef Ebóla kemur upp. „Menn hafa reynt að undirbúa sig eins og hægt er,“ segir Fjölnir Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri lækninga á HSS og sóttvarnalæknir umdæmisins í samtali við Víkurfréttir. „Það liggur fyrir að sjúklingur sem fyrirfram er vitað að er smitaður kemur ekki á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Vakni grunur um smit um borð í flugvél á leið til landsins þá fer læknir frá HSS ásamt sjúkraflutningamönnum að flugvélinni. Læknirinn metur ástandið og ef grunurinn er staðfestur verður farið með sjúklinginn inn á Landspítala í samráði við smitsjúkdómalækna á vakt þar,“ segir Þórunn Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á HSS. Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur lykilstarfsfólk á slysa- og bráðamóttöku verið undirbúið ásamt læknum HSS. Ákveðinn verkferill fer í gang og á stofnuninni er tilbúinn pakki með hlífðar-
búnaði og því sem þarf til að meðhöndla sjúkling. „Starfsfólk okkar á að vita hvernig á að bregðast við og haga sér gagnvart hinum veika,“ segir Þórunn. Ákveðnar spurningar eru lagðar fyrir sjúkling þar sem kallað er eftir því hvort hugsanlega gæti verið um þennan sjúkdóm að ræða. Ef það er metið svo er viðkomandi sendur til Reykjavíkur. Þar er tekin blóðprufa sem þarf að senda erlendis til greiningar. Halldór Jónsson, forstjóri HSS, segir í samtali við blaðið að fyrstu spurningar snúi að því hvaðan sjúklingur sé að koma og hvaða samskipti hann hefur haft og þá hvort líkur séu á því að um smit sé að ræða. Það skiptir t.a.m. máli hvort viðkomandi hafi verið í Vestur-Afríku innan þriggja vikna frá komu til landsins. Ef ekki, þá horfir málið öðruvísi við. Einkennin eru mjög lík venjulegri inflúensu til að byrja með.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er búin að fá hefðbundinn hlífðarbúnað sem á að duga við aðstæður sem hugsanlega geta komið upp. Ennþá er beðið eftir svokölluðum heilgalla sem læknir og sjúkraflutningamenn munu klæðast. Hann er væntanlegur í þessari viku. Lykilfólk frá HSS og sjúkraflutningamenn mun fá námskeið í að klæða sig í og úr gallanum. Þessir aðilar munu svo leiðbeina áfram til lögreglu og annarra viðbragðsaðila. „Menn taka ógnina alvarlega og við höfum reynt að undirbúa okkur eins vel og hægt er miðað við aðstæður. Stefnan er ekki sú að sjúklingar komi á HSS og ákvarðanir eru teknar í samráði við færustu sérfræðinga hver séu næstu skref,“ segir Fjölnir Freyr og Þórunn bætir við: „Ef svo ólíklega vill til að smitaður kemur á HSS þá erum við undir það búin“.
Halldór Jónsson, forstjóri, Þórunn Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar og Fjölnir Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri lækninga og sóttvarnalæknir umdæmisins. VF-mynd: Hilmar Bragi
13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 23. október 2014
-fréttir
pósturu vf@vf.is
■■ 28 af 44 kennurum í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í verkfalli:
Með 30 - 40% lægri laun en aðrir kennarar „Staðan er slæm. Við erum eina kennarastéttin sem hefur verið skilin útundan í kjarasamningaviðræðum og það er óskýrt hvers vegna. Búið er að semja við grunnskóla- og leikskólakennara en við höfum dregist verulega aftur úr í kjörum. Ef við myndum samþykkja samningana eins og þeir liggja fyrir núna yrðum við á 3040% lægri launum en grunnskólakennarar. Eðlilega erum við ekki reiðubúin að samþykkja slík kjör,“ segir Haraldur Árni Haraldsson, skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, í samtali við Víkurfréttir. Verkfall tónlistarkennara hófst á miðnætti og tekur það til um 500 kennara í Félagi tónlistarkennara. 93 prósent þeirra samþykktu verkfallsboðun. 28 í verkfalli af 44 Tónlist arskólakennarar hafa undanfarna mánuði átt í kjaraviðræðum við Launanefnd sveitarfélaga án árangurs verkfall er hafið hjá þeim tónlistarkennurum sem tilheyra Félagi Tónlistarskólakennara (FT). Annar hópur tónlistarskólakennara, félagar í Félagi íslenskra hljómlistarmanna (FÍH), er sömuleiðis í kjaraviðræðum, en hefur ekki boðað til verkfalls. Samninganefndir tónlistarskóla-
kennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga funduðu hjá Ríkissáttasemjara fram á kvöld í gær án þess að leysa kjaradeiluna. Í Tónlistarskóla Reykjanebæjar starfa 44 tónlistarkennarar, þar af eru 28 í verkfalli en 16 í störfum (félagar í FÍH). Forskólakennsla fellur niður í 5 skólum af 6 „Hér eru nemendur sem fá enga kennslu en aðrir hluta. Einhverjir komast t.d. á lúðrasveitaræfingu en ekki í tíma á meðan aðrir komast í tíma en ekki á strengjasveitaræfingu. Þá fellur forskólakennsla niður í öllum skólum í Reykjanesbæ nema í Akurskóla,“ segir Haraldur og bætir við að kennarar, nemendur og forráðamenn þeirra hefðu verið búnir undir ef til verkfalls skyldi koma. „Kennarar hafa verið samband við sína nemendur.
Ég sá í hvað stefndi og sendi póst á alla forráðamenn í gær og skilgreindi hvernig kennslan myndi skerðast. Skólastjórar vissu það líka.“ Finna fyrir stuðningi Haraldur segir að í sveitarfélögum eins og í Reykjanesbæ sé mikill metnaður í tónlistar- og menningarstarfi. „Því hljóta sveitarstjórnafulltrúar að vera upplýstir um gang mála. Þeir hljóta að vera óánægðir með stöðuna eins og hún er, bæði er varðar kjör tónlistarkennara og að grípa þurfi til verkfalls. Mögulega geta þeir þrýst eitthvað á samninganefnd sveitarfélaga. Við finnum fyrir stuðningi í samfélaginu og það er kominn tími á leiðréttingu. Við höfum verið með lausa samninga síðan árið 2006.“
ATVINNA
Okkur vantar starfsfólk bæði tímabundið og til framtíðar. Á Soho ganga allir starfsmenn í öll störf.
Aðstoð í eldhúsi 100%
Uppvask – þrif – útkeyrsla – tiltekt 70% Útkeyrsla, aukavinna um helgar. Ath! Ekki sækja um ef þú reykir, talar ekki íslensku og ert ekki með bílpróf. Sendið fyrirspurn á soho@soho.is
Dömu-
&
herrakvöld
Léttar veitingar
Pétur Jóhann Trúbbadorarnir Heiður Hipp hopp
Happdrætti
Takwando Fjöldi glæsilegra tilboða
Verslunarmiðstöðinni Krossmóa Reykjanesbæ 31. okt frá kl. 19:00-22:00
Kynnir kvöldsins er Jogvan
Carino Carino
HÁRSNYRTISTOFA
HÁRSNYRTISTOFA
14
fimmtudagurinn 23. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-viðtal
pósturu hilmar@vf.is
Ferðaþjónustan noti ekki Reykjavík International – Réttar upplýsingar um aðlþjóðaflugvöllinn skipta miklu máli
F
Þuríður Halldóra Aradóttir verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Reykjaness.
lugfélög og ferðaþjónustuaðilar hafa auglýst Keflavíkurflugvöll sem Reykjavík International. Þuríður Halldóra Aradóttir verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Reykjaness hefur í sumar farið í umræðu við flugfélögin um að nota ekki Reykjavík International þegar þau eru að kynna Keflavíkurflugvöll og nota frekar Keflavík International. Þuríður segir í samtali við Víkurfréttir að vel hafi verið tekið í erindi Markaðsstofu Reykjaness. „Ég fékk þetta viðfangsefni inn á borð hjá mér í vor, en þetta hefur komið upp af og til á undanförnum árum. Ég þekki ekki alveg söguna eða af hverju þetta byrjar í upphafi en líklega til að tengja völlinn við höfuðborgina eins og gert er víða um heim, þ.e. Reykjavík – Keflavík (KEF). Síðan hefur þetta eitthvað snúist innan fyrirtækjanna og endað í Reykjavík International,
sem er í rauninni ekki til og er rangt og hefur valdið misskilningi hjá erlendu gestum okkar. Nokkur dæmi eru um það að erlendir aðilar sem fljúga eiga erlendis, mæti á Reykjavíkurflugvöll í innritun,“ segir Þuríður í samtali við Víkurfréttir. Nú er mikil umræða innan ferðaþjónustunnar um gæði og mikilvægi þess að gefa réttar upplýsingar til gesta okkar svo að þeir upplifi Ísland á jákvæðan hátt og fái góða mynd af landi og þjóð. „Því ættu réttar upplýsingar um hvað er alþjóðaflugvöllurinn Keflavík (Keflavík International KEF) og innanlandsf lug völlurinn Reykjavík (Reykjanvík domestic REY) ekki að vera nein undantekning. Þetta kann að hljóma mjög lítilvæglegt mál í hugum margra en það er svo oft sem lítill neisti getur valdið stóru báli og því er mikilvægt að við gefum frá okkur réttar upplýsingar strax í upphafi. Við höfum lagt um með
það að það þurfi í sjálfu sér ekki að taka Reykjavík út úr menginu en að passa upp á það að Keflavík verði ekki tekið út og notast verði við merkinguna Reykjavík-Keflavík (KEF) líkt og gert er t.d. við Stockholm-Arlanda og fleiri staði“. Markaðsstofa Reykjaness lagði þetta fyrir ferðaskrifstofunefnd SAF (Samtök ferðaþjónustunnar) í vor sem tók mjög vel í erindið og síðan þá hafa samtökin unnið að því að þeirra aðilar sýni gott fordæmi og leiðrétti þetta innan sinna raða. „Það hefur virkað vel og hafa ferðaskrifstofur og rútufyrirtæki tekið vel í þetta og breytt þessu hjá sér. Þá ætlar SAF að vinna þetta áfram með okkur, auk Ferðamálastofu. Þá skilst mér að það liggi einnig fyrir erindi hjá ISAVIA um málið,“ segir Þuríður Halldóra Aradóttir, verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Reykjaness, í viðtali við Víkurfréttir.
Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
húsafriðunarsjóði fyrir árið 2015 Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur nr. 577/2014. Samkvæmt úthlutunarreglunum er heimilt að veita styrki úr sjóðnum til:
viðhalds og endurbóta á friðlýstum og
friðuðum húsum og mannvirkjum. viðhalds annarra mannvirkja sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær. Umsóknir eru metnar með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á heimasíðu Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2014. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun. Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit um viðhald og endurbætur friðaðra og varðveisluverðra húsa sem finna má á heimasíðu Minjastofnunar Íslands, undir gagnasafn og á Húsverndarstofu í Borgarsögusafni Reykjavíkur/Árbæjarsafni. Suðurgötu 39,101 Reykjavík Sími: 570 1300 www.minjastofnun.is husafridunarsjodur@minjastofnun.is
Hefur þú áhuga á heilsueflandi skólastarfi? Allir leikskólar Skóla ehf. starfa eftir Heilsustefnunni og leggja ríka áherslu á heilsueflingu, jákvæðan skólabrag og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkja.
Laus störf í leikskólum hjá Skólum ehf.
Við leitum að samstarfsfólki sem: • Er tilbúið í að tileinka sér starfsaðferðir og hugmyndafræði leikskólans. •Allir Hefur áhuga áSkóla heilsueflingu, og uppbyggjandi samskiptum. leikskólar ehf. starfaumhverfismennt eftir Heilsustefnunni og leggja ríka áherslu á heilsueflingu, jákvæðan •skólabrag Er tilbúiðog í að takalærdómssamfélag þátt í öflugri starfsþróun. öflugt þar sem samvinna og gleði ríkir. Því leitum við að samstarfsfólki sem: • Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig leikskólans fram við að velja sér jákvæð viðhorf í dagsins önn. tilbúið til að tileinka sér starfsaðferðir • Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum Skólarnir matseðli í takti við Næringarstefnu Skóla ehf. en það verkefni hlaut • Er tilbúiðfylgja til aðsameiginlegum taka þátt í öflugri starfsþróun tilnefningu til Orðsporsins 2014. Kjör kennara Skóla við Félag leikskólakennara. • Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig frameru umsamkvæmt að velja sérsérsamningi jákvæð viðhorf í dagsins önn.
Við hvetjum karla karla jafnt til að að sækja sækja um! Við hvetjum jafnt sem sem konur konur til um!
Heilsuleikskólinn Háaleiti, Ásbrú í Reykjanesbæ Heilsuleikskólinn Háaleiti, Ásbrú í Reykjanesbæ Auglýsir eftir: •Auglýsir Deildarstjóra eftir: í 100% starf frá og með áramótunum þ.e. 1.janúar 2015. • Leikskólakennara og/eða uppeldismenntuðum starfsmanni í 100% stöðu Heilsuleikskólinn Háaleiti er þriggja deilda leikskóli um 60 börn. • Leikskólakennara og/eða uppeldismenntuðum starfsmanni í 50%með stöðu Heilsuleikskólinn Háaleiti er þriggja deilda leikskóli með um 60 börn.
Nánari upplýsingar veitir: Þóra Sigrún Hjaltadóttir leikskólastjóri, Nánari upplýsingar veitir:sími 426-5276 Rafrænar umsóknir er Sigrún hægt aðHjaltadóttir leggja inn skólastjóri, á http://www.leikskolinn.is/haaleiti/ undir Þóra sími 426-5276 Rafrænar umsóknir er„Um hægt leikskólann“. að leggja inn á http://skolar.is/Starf/ Heilsuleikskólar Skóla eru: Heilsuleikskólar Skóla ehf. eru: Hamravellir í Hafnarfirði, Háaleiti á Ásbrú í Reykjanesbæ, Hamravellir í Hafnarfirði, Háaleiti á Ásbrú í Reykjanesbæ, Kór í Kópavogi, Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík. Kór í Kópavogi, Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík.
15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 23. október 2014
-mannlíf
pósturu vf@vf.is
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til kl. 17, 1. des. 2014. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@byggdastofnun.is og bréflega á póstfangið Byggðastofnun v/AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Ártorgi 1, 550 Sauðárkrókur Styrkir sem sjóðurinn veitir falla undir þrjá flokka:
Smári Klári fer sóló Á yfir hundrað lög á lager
S
Smári hefur verið iðinn við lagasmíðar fyrir utan þau lög sem rata á plötur Klassart, en þær eru nú orðnar þjár talsins. Gítarleikarinn snjalli segist eiga yfir 100 lög á lager. „Ég íhugaði að gera þetta að Klassart lagi fyrst þegar ég samdi það. Við Fríða systir reyndum nokkrar laglínur og texta við það en það virkaði ekki, stundum er það bara þannig, sum lög eiga bara að vera instrúmental. Ég er náttúrulega svo ótrúlega heppinn að fá að vinna með og semja fyrir eina af bestu söngkonum Íslands, það gefur manni auka kraft. Það er svo gott og mikilvægt finnst mér að geta unnið með fólki sem gefur svona mikla jákvæða orku frá sér eins og Fríða gerir, sérstaklega í þessum bransa,“ segir Smári um systur sína.
b. Smá- eða forverkefni Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða til að undirbúa stærri verkefni á sviði rannsókna og/ eða þróunar. Styrkupphæð er allt að einni milljón króna og skal verkefnið unnið innan tólf mánaða.
c. Atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum Veittir eru styrkir til verkefna, sem stuðla að nýjum störfum og aukinni verðmætasköpun í sjávarbyggðum. Horft er til ýmissa verkefna, sem geta tengst t.d. framboði á sjávarfangi, ferðaþjónustu, nýjum vörum eða þjónustu. Hámarkstími verkefna er 12 mánuðir og hámarksupphæð styrkja er þrjár milljónir króna. Um alla styrki gildir að framlag sjóðsins má ekki fara fram yfir 50% af heildarkostnaði og sjóðurinn tekur ekki þátt í að styrkja fjárfestingar. Nánari upplýsingar og umsóknarblað er að finna á heimasíðu sjóðsins www.avs.is.
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi starfar á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi ∙ Ártorgi 1 ∙ 550 Sauðárkrókur ∙ sími 455 5400 ∙ www.avs.is
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001
PIPAR\TBWA • SÍA • 143141
mári Guðmundsson, oftast kenndur við hljómsveitina Klassart, hyggst gefa út sólóplötu með efni sem hann hefur verið að semja undanfarin 13 ár eða svo. Hann sendi frá sér nýtt lag á dögunum sem nefnist Sandvík en hann ætlar sér að bæta nokkrum nýjum lögum við á komandi plötu. „Sandvík er hús í Sandgerði þar sem afi minn og amma bjuggu og pabbi ólst upp. Þórður afi í Sandvík vann lengi mest í Kaupfélagi Suðurnesja sem var á Hafnargötu 62,“ segir Smári. Hann segist hafa verið með aðra löppina í Sandgerði síðasta mánuðinn sem hafi kallað upp ákveðna fortíðarþrá í honum sem varð til þess að hann fann þörf fyrir því að koma þessu lagi frá sér.
a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þróunarverkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins. Veittur er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera grein fyrir verkþáttum og fjármögnun. Hver styrkur getur numið allt að átta milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verkefna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt, þarf að gera grein fyrir framvindu þess áður en styrkumsókn er afgreidd.
Öflug fjáröflun fyrir hópinn Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi í síma 515 1100 eða næsta útibú Olís og leitið tilboða.
Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Reykjanesbær Grindavík
420 1000 426 7500
www.rekstrarland.is
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100
16
fimmtudagurinn 23. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-aðsent
pósturu vf@vf.is
■■Þemadagar í Stóru-Vogaskóla:
Börn um allan heim Y
firskrift þemadaga í StóruVogaskóla var „Börn um allan heim“ og stóðu þeir yfir frá 15.-17.október. Hugmyndin kviknaði þegar Unicef sendi okkur beiðni um þátttöku í söfnun til styrktar þróunarhjálp fyrir börn og fannst okkur tilvalið að fræða okkar börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og um aðstæður barna víða um heim. Þá notuðum við tækifærið og ræddum mun á réttindum og forréttindum. Að sjálfsögðu tókum við þátt í degi rauða nefsins og má segja að þar hafi vinnan byrjað. Kennarar hafa síðan þá kynnt greinar barnasáttmálans og fléttað inn í kennslu eftir atvikum. Þegar kom svo að þemadögum voru nemendur orðnir nokkuð vel kunnugir barnasáttmálanum. Fyrstu tvo dagana unnu nemendur alls konar verkefni úr Litla kompás og fjölmörg önnur verkefni sem hægt var að tengja við barnasáttmálann. Afraksturinn var t.d. plaköt þar sem sjá má á öðru þeirra jákvæðar fréttir og hinu neikvæðar fréttir, þau kusu að tjá þær með myndum sem töluðu sterkt til þeirra. Annar hópur teiknaði hendur sem leiddust í hring og fallegt ljóð í miðjunni um vinskap. Einn hópur gerði útlínur manneskju á stórt plakat og síðan límdu þau inn á það réttindi barna skv. sáttmálanum. Á þriðja degi leystu nemendur svo þrautir sem reyndu mjög á samvinnu og samheldni. Nemendum var blandað saman frá 1.-10. bekk
■■Sigrún Ólafsdóttir skrifar: Nemendur þurftu að sækja sér vatn í tjörnina og hella í flöskur, til „þvotta og neyslu“
og skipt í hópa. Sú hópaskipting var óvenjuleg og fór fram undir yfirskriftinni: Leit að týndum fjölskyldumeðlimum Leit að fjölskyldumeðlimum fer fram í skólanum. Hver fjölskylda hefur sitt sérkenni (litaða borða). Fyrirliðar ganga milli kennslustofa og safna saman fjölskyldumeðlimum. Þegar allir eru fundnir kemur hópurinn saman inn í sal“. Fyrirliði úr 9. eða 10.bekk ber ábyrgð á að allur hópurinn sé alltaf saman í öllum þrautum. Elstu nemendurnir báru sem sagt ábyrgð á þeim yngri og sáu til þess að enginn týndist úr hópnum. Þau fylgdust síðan að á milli 12 stöðva og leystu mismunandi þrautir, til dæmis bjuggu þau til bolta úr einhverju efni sem þau fundu, jafnvel pappír, plastpokum og límbandi, skó úr efni sem til féll, kaffipokum, sóttu vatn í tjörnina og settu á
flöskur (án þess að nota trekt), flokkuðu hrísgrjón, við hrísgrjónavinnuna voru þau svo einbeitt að það mátti heyra saumnál detta. Þau þvoðu sér upp úr mis hreinu vatni, gengu fram og aftur göngustíginn, eldri nemendur þurftu að bera þau yngri á bakinu. Dagurinn gekk mjög vel og allri nemendur stóðu sig með prýði. Það var frábært að sjá hve ábyrg þau eldri voru gagnvart yngri krökkunum og þau yngri litu með stórum augum upp til þeirra. Hvert sem litið var sáust nemendur með bros á vör og þau fundu til ábyrgðar og samkenndar. Við erum ákaflega stolt af krökkunum okkar og höfðu einhverjir starfsmenn á orði að þessir þemadagar hefðu verið einstaklega vel heppnaðir. Börnin hafa safnað áheitum eða styrkjum í tengslum við verkefnið sem þau munu skila af sér í næstu viku.
BORGARAFUNDUR
Opinn íbúafundur um fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar haldinn í Stapa miðvikudaginn 29. október kl. 20:00.
Áhersla á konur og krabbamein V
etrarstarf Krabbameinsfélags Suðurnesja hefur farið vel af stað í ár. Október er áberandi mánuður þar sem aðal áherslan er á konur og krabbamein og margar byggingar á Suðurnesjum eru fallega lýstar í bleiku. Alls staðar mætir félagið velvilja og margir eru reiðubúnir til að leggja okkur lið við uppbyggingu félagsins. Frá því í byrjun október hafa verslunareigendur við Hafnargötuna selt falleg kerti frá Jöklaljósi til styrktar félaginu og ýmsar aðrar verslanir hafa veitt okkur styrk á einn eða annan hátt. Laugardaginn 18. október var efnt til Samflots í sundlaug Akurskóla sem heppnaðist afar vel. Ýmislegt annað en flotið var í boði. Ilmur af Lavander var í loftinu frá hinum frábæru Zolo olíulömpum en hluti ágóða af sölu lampanna í október rennur til Krabbameinsfélagsins. Fida Abu Libden kynnti og gaf smakk af vörum frá GeoSilica sem er náttúrulegt íslenskt fæðubótarefni framleitt úr kísil og mun koma á almennan markað í lok árs. Allar konur sem mættu fengu prufur af hinum frábæru EGF húðdropum frá Sif Cosmetics. Ánægjulegt var að geta kynnt þessar frábæru íslensku vörur. Boðið var upp á kaffi frá Kaffitár, kleinur frá Sigurjónsbakaríi og ávexti frá Nettó. Baldur Guðmundsson og Sævar Smárason fluttu notalega tónlist meðan gestir nutu alls sem í boði var. Helgina 24. – 26. október munu fjórir veitingastaðir á Suðurnesjum bjóða upp á bleika matseðla þar sem hluti ágóða rennur til Krabbameinsfélags Suðurnesja. Veitingastaðurinn Vitinn í Sandgerði og KEF restaurant á Hótel Keflavík verða með bleikan matseðil laugardaginn 25. október og Flughótel
í Keflavík laugardaginn 25. og sunndudaginn 26. október. 20% af ágóða matseðils þessara veitingastaða rennur til KS. Veitingastaðurinn Tveir Vitar í Garði verður með bleikan matseðil alla helgina föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld og rennur allur ágóði af matseðlinum til KS. Einnig verða þeir með sitt vinsæla kaffihlaðborð þessa helgi og rennur allur ágóði þess einnig til okkar félags. Ég hvet Suðurnesjabúa til að eiga notalega stund með fjölskyldu eða vinum á einhverjum þessara veitingastaða og styrkja um leið gott málefni. Sunnudaginn 26. október kl 20:00 verður bleik messa í Keflavíkurkirkju í samstarfi við Krabbameinsfélag Suðurnesja. Sigurbjört Kristjánsdóttir mun þar segja frá reynslu sinni af því að greinast með krabbamein. Seríurnar sjá um söng og leik ásamt Arnóri Vilbergssyni sem verður við hljófærið. Mánudaginn 3. nóvember kl 19:30 verður farin bleik rökkurganga sem er hugsuð fyrir alla fjölskylduna. Gengið verður frá Holtaskóla og eru allir hvattir til að mæta með vasaljós, luktir eða höfuðljós. Allir fá afhenta bleika filmu yfir ljósin áður en gangan hefst. Gengið verður að skógræktinni í Vatnsholti þar sem boðið verður upp á heitt kakó og sögustund við varðeld. Ævar Þór Benediktsson mun lesa upp úr hinni frábæru bók sinni Þín eigin þjóðsaga. Með þessari göngu ljúkum við árlegu árvekniátaki varðandi krabbamein hjá konum og segjum takk fyrir okkur. Alla viðburði félagsins má sjá á Facebook-síðu Krabbameinsfélags Suðurnesja. Sigrún Ólafsdóttir Forstöðumaður Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélags Suðurnesja
Dagskrá: 1. Fundarsetning 2. Ráðgjafar KPMG kynna fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar og tillögur til úrbóta 3. Fyrirspurnir úr sal Fundarstjóri: Ólafur Helgi Kjartansson
Frá samfloti í sundlauginni í Akurskóla.
17
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 23. október 2014
-fs-ingur
vikunnar
-ung
Er mjög óþolinmóð FS-ingur vikunnar að þessu sinni er Bertmarí Ýr Bergmannsdóttir, en hún er 18 ára og stundar nám á Félagsfræðibraut. Hún segist ætla að verða rík og hamingjusöm í framtíðinni og reka sitt eigið hótel. Hvaðan ertu og aldur? Er 18 ára ættuð frá Filippseyjum en er fædd og uppalin á Íslandi. Bý í Reykjanesbæ. Helsti kostur FS? Ein hurðin opnast sjálfkrafa. Hjúskaparstaða? Á föstu. Hvað hræðistu mest? Veit ekki hvað ég hræðist mest en mér finnst postulínsdúkkur vera svakalega creepy. Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Enga hugmynd. Hver er fyndnastur í skólanum? Það er ótrúlegt hvað ég get hlegið af mér sjálfri aðrir bara skilja það ekki. Hvað sástu síðast í bíó? Cuban Fury, hún var bara fín. Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Ódýrari mat. Hver er þinn helsti galli? Ég er mjög óþolinmóð. Hvað er heitasta parið í skólanum? Ekki viss, öll pörin virka svo mikil krútt.
Eftirlætis
Kennari: Íris er algjört yndi
Fag í skólanum: Enska og spænska Sjónvarpsþættir:
Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Betra wifi og betri tölvur Áttu þér viðurnefni? Ég heiti Bertmarí og er bara kölluð Bertmarí, takk fyrir. Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? Cool, nice og fokk. Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Fínt. Áhugamál? Teikna, tónlist og ferðast. Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Ég ætla að vera rík, hamingjusöm, giftast æðislegum manni og eiga frábær börn og vonandi verða hótelsstjóri eða vinna í hotel/túrista bransanum. Ertu að vinna með skóla? Vinn á Pöndu. Hver er best klædd/ur í FS? Allir klæða sig frábærlega vel.
allar seríurnar í American Horror Story
Leikari:
Kvikmynd:
Vefsíður: Youtube
Æi veit ekki, svo margar góðar get ekki valið Big Bang Theory, How I met your mother og
Hljómsveit/tónlistarmaður:
pretty reckless
Evanescence, In this moment og The
Evan Peters og Emma Watson Flíkin: Allar kósý flíkurnar mínar Skyndibiti:
Modern Family lýsir mér best
Ísabel Jasmin Almarsdóttir er í 10. bekk í Grunnskóla Grindavíkur. Hún er mikið fyrir boltaíþróttir og hana langar að hitta knattspyrnumanninn Cristiano Ronaldo. Hvað gerirðu eftir skóla? Fer á æfingu, læri og hitti vinkonur.
Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt? Gunnar Nelson.
Hver eru áhugamál þín? Fótbolti eða bara allar boltaíþróttir.
Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag? Ég myndi lauma mér í flugvél til Spánar.
Uppáhalds fag í skólanum? Enska og stærðfræði. En leiðinlegasta? Danska. Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það? Cristiano Ronaldo. Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann? Langar að geta flogið. Hvað er draumastarfið í framtíðinni? Hef ekki hugsað mikið um það en langar að verða atvinnukona í fótbolta.
Kjúklingaborgarinn á Pulsuvagninum
Hver er frægastur í símanum þínum? Heiðrún Fjóla.
Hvað tónlist/lag fílarðu í laumi (guilty pleasure)?
Besta:
Man ekki hvað lagið heitir.
Bíómynd?
Hunger Games eru mjög góðar myndir. Sjónvarpsþáttur?
Modern Family.
Tónlistarmaður /Hljómsveit?
Chris Rene.
Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum? Bara nokkuð venjulegur. Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu? Hress og hyper gella. Hvað er skemmtilegast við þinn skóla? Félagsmiðstöðin sem við köllum Þruman. Hvaða lag myndi lýsa þér best? Usher ft Lil' Jon and Ludacris - Yeah! Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best? Modern family.
Matur? Kjúlli. Drykkur? Fanta Exotic. Leikari/Leikkona?
Jim Carrey snillingur. Fatabúð?
H&M.
Vefsíða? Fótbolti.net. Bók? Hunger Games Catching
Fire.
JÓLAHLAÐBORÐ á Hótel Örk fimmtudagurinn 4. desember 2014
Hversvegna gera ekki fleiri framhaldsskólar á Íslandi svona?
F
jölbrautaskóli Suðurnesja sendi þrjá nemendur skólans á alþjóðlega ráðstefnu framhaldsskólanema sem haldið var í Stokkhólmi á dögunum. Alls tóku 70 nemendur frá 11 löndum þátt á ráðstefnunni þar sem m.a. er leikið eftir starf Evrópuþingsins. Um er að ræ ða leiðtoga- og lýðræðisþjálfun sem stendur yfir í fjóra daga. Ægis Karl Ægisson, áfangastjóri í Fjölbrautaskóla Suðurnesja var með
hópnum í Svíþjóð. „Nemendur stóðu sig prýðilega. Við fóum með unga fyrirmyndarnemendur sem öðlast dýrmæta reynslu,“ segir Ægir Karl. Þau voru sér sjálfum og skólanum til sóma, t.d. flutti Bertmari kynningarræðu íslensku sendi-nefndarinnar blaðlaust á ensku og var sérlega áheyrileg. Þau sögðu þetta merkilega reynslu og spurðu: Hversvegna gera ekki fleiri framhaldsskólar á Íslandi svona?
Jólahlaðborð, gisting og morgunverður 10.800.- kr. á mann í tveggja manna herbergi (aukagjald í einbýli kr. 3000.-) Borðhald hefst kl. 19:30, en dvöl getur hafist kl. 16:00. Rútuferðir: Farið verður frá Garði kl. 14:00, Sandgerði kl. 14:15, Nesvöllum kl.14:30 og Vogum kl. 14:45. Skráning er hafin hjá Erni, 846-7334, Vogum. Lýdíu, 423-7604, Sandgerði. Brynju, 422-7177, Garðinum. Bjarneyju, 421-1961, Reykjanesbæ. Tekið á móti pöntunum fyrir 5. nóvember. Skemmtinefnd
FS-ingarnir sem tóku þátt á ráðstefnunni; Adam Sigurðsson, Bertmarí Ýr Bergmannsdóttir og Aþena Eir Jónsdóttir Elizondo.
18
fimmtudagurinn 23. október 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir
pósturu eythor@vf.is Á æskuslóðum: Ingvar var tíður gestur á sparkvellinum við Njarðvíkurskóla
Dreymdi um að komast í stórt lið og verða Íslandsmeistari einn daginn Þegar Njarðvíkingar féllu í 2. deild sýndu nokkur félög úr efstu deild áhuga á Ingvari. Nokkuð þekkt er orðin sagan af því að Bjarni Jóhannsson, þá þjálfari Stjörnunnar, hafi búið um 50 metrum frá Njarðtaksvellinum og verið tíður gestur á leikjum Njarðvíkinga. Hann vissi því upp á hár hvers Ingvar var megnugur. „Það var heillandi að fara í Stjörnuna vegna þess að Bjarni Jó vissi alveg hvað ég gæti og hafði séð mig margsinnis. Það var í raun eina liðið sem kom til greina. Einnig leist mér vel á markmannsþjálfara Stjörnunnar, Henrik Bödker, og höfum við náð frábærlega saman öll fjögur árin og hef ég bætt mig mikið undir hans stjórn.“ Þá strax var Ingvar hugsaður sem aðalmarkvörður liðsins sem var ungt að árum. „Mig dreymdi um að komast í stórt lið og verða Íslandsmeistari einn daginn, það er alveg mögnuð tilfinning að sá draumur hafi orðið að veruleika,“ segir Íslandsmeistarinn nýbakaði.
Stoltur af því að vera úr Njarðvík Markvörðurinn Ingvar Jónsson átti nánast fullkomið sumar - Kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins
Markvörðurinn Ingvar Jónsson var á dögunum kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins í knattspyrnu. Eflaust vita ekki margir að Ingvar ól manninn við Grundarveginn í Njarðvík, en knattspyrnulegt uppeldi hlaut hann hjá Frey Sverrissyni og fleiri góðum í knattspyrnudeild Njarðvíkur. Nú er Ingvar Íslandsmeistari með Stjörnunni, lék gegn stórliði Inter Milan í sumar í Evrópukeppninni og vann sér inn sæti í A-landsliði Íslands. Það er því óhætt að segja að sumarið hafi nánast verið fullkomið hjá Ingvari.
T
veir Suðurnesjamenn hafa hlotið sömu nafnbót áður. Keflvíkingurinn Guðmundur Steinarsson var kjörinn bestur árið 2008 og Gunnar Oddson frá Keflavík árið 1996, en hann lék þá með Leiftri. Aðeins tvisvar áður hafa markmenn hlotið nafnbótina frá árinu 1984, þeir Hannes Halldórsson (2011) og Bjarni Sigurðsson árið (1984). Það er mikill heiður fyrir Ingvar að verða aðeins þriðji markvörðurinn til þess að vera valinn bestur á þessum 30 árum. „Ef markmaður gerir ein mistök þá er hann dæmdur út frá því. Ef sóknarmaður gerir 10 mistök þá man enginn eftir því ef hann skorar svo nokkur mörk,“ segir Ingvar. Hann segir engan leyndardóm liggja að baki árangri sem þessum. Hann hafi þó gefið sér meiri tíma til þess að æfa í sumar. „Ég hef frá unga aldri þurft að hafa mikið fyrir hlutunum og þurft að æfa mikið. Ég var ekki að vinna eins mikið í sumar og meira að einbeita mér bara að fótboltanum. Það hefur eflaust hjálpað mér helling. Ég æfði nánast eins og atvinnumaður í sumar,“ segir Ingvar sem starfar sem sjálfstæður einkaþjálfari. Ingvar, sem er 25 ára gamall, hefur undanfarin fjögur ár leikið með Stjörnunni í Garðabæ við góðan orðstír. Hann hóf að æfa knattspyrnu sex ára gamall og lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki Njarðvíkur tíu árum síðar, þá aðeins 16 ára. „Sævar (Júlíusson) markmannsþjálfari hafði gríðarlega trú á mér og taldi að ég gæti náð langt. Hann pressaði á þjálfarann að gefa mér tækifæri. Hann
á mikinn þátt í því hversu langt ég hef náð. Hann vann mikið með mig í yngri flokkum og einnig fyrstu árin í meistaraflokki. Hann er stoltur af mér í dag og fékk alveg gæsahúð þegar ég fékk verðlaunin frá KSÍ,“ segir Ingvar um fyrsta tækifærið.
„Fólk hefði haldið að ég væri hálf klikkaður ef ég hefði sett mér þessi markmið fyrir tímabilið“ „Þetta var nánast fullkomið tímabil fyrir mig og ég átti jafna og góða leiki í allt sumar. Ég gerði ekki mörg mistök og er gríðarlega stoltur af því að vinna þetta. Sérstaklega að vera kosinn af öllum mótherjum mínum. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér þetta fyrir tímabilið, að verða Íslandsmeistari og komst í fjórðu umferð í Evrópukeppninni. Fólk hefði haldið að ég væri hálf klikkaður ef ég hefði sett mér þessi markmið fyrir tímabilið.“ Ingvar lét sér það ekki nægja heldur vann hann sér sæti í A-landsliði Íslands. Eftir að hafa fagnað Íslandsmeistaratitlinum eftir sögufrægan leik gegn FH, var Ingvar nokkru síðar kominn upp í flugvél á leið til Lettlands með landsliðinu. „Ég var eiginlega ekki alveg búinn að átta mig á þessu öllu fyrr en ég kom heim úr landsliðsferðinni,“ segir hann.
Treystu á 18 ára gutta Ingvar var 18 ára þegar Njarðvíkingar ákváðu að treysta á hann og láta honum eftir stöðu aðalmarkvarðar, en þá lék liðið í 1. deild. „Ég var alveg óskrifað blað á þeim tíma og er Njarðvíkingum mjög þakklátur að hafa gefið mér tækifæri.“ Ingvar viðurkennir að Keflvíkingar hafi borið í hann vígjurnar á sínum tíma en hann sá hag sínum betur borgið hjá uppeldisfélaginu.
Stjarnan frá Njarðvík, í sögufrægum leik gegn FH.
„Albert Sævarsson var þá markvörður hjá Njarðvík og Ómar Jóhanns hjá Keflavík. Ég sá að það yrði styttra í það að Albert legði hanskana á hilluna en Ómar,“ segir Ingvar léttur í bragði. Einnig taldi hann að réttast væri að byrja í neðri deildum og vinna sig upp í úrvalsdeild smá saman með reynslunni. „Hefði ég verið í stærri klúbb og ekki fengið sénsinn svona snemma þá hefði ég ekki verið búinn að ná jafn langt og ég hef gert í dag. Ég fékk t.d. tækifæri með unglinga-
landsliðinu þar sem ég var eini markvörðurinn á þeim aldri sem spilaði með meistaraflokki,“ segir Ingvar sem að baki leiki með U19 og U21 liði Íslands. Ingvar hefur þrátt fyrir unga aldur spilað sem aðalmarkvörður liða sinna í átta ár. Sú reynsla hefur reynst honum ansi dýrmæt. „Ég byrjaði að spila kannski nokkuð fyrr en margir aðrir en það er vonandi að ég eigi mín bestu ár eftir og verði bara betri.“ Helvíti töff að vera úr Njarðvík „Það er varla annað hægt en að vera Stjörnumaður eftir þessi fjögur ár. Sérstaklega eftir að hafa hjálpað til við að skrifa sögu félagsins. Maður finnur að þetta eru langbestu stuðningsmenn landsins. Þrátt fyrir að FH-ingar hafi reynt að hringja út mannskap og boðið þeim bjór þá gekk það illa hjá þeim, maður var ekkert var við þá,“ segir markvörðurinn glettinn. Hann er þó alltaf grænn í gegn og stoltur af því að vera Njarðvíkingur. „Ég held að það viti flestir að ég er Njarðvíkingur. Þegar það er skrifað um mig eða Óskar Hauksson í fjölmiðlum þá er alltaf talað um okkur sem Njarðvíkinga, það er helvíti töff. Maður er stoltur af því að vera úr Njarðvík.“ Ingvar fylgist með Njarðvíkurliðinu og segir að það hafi verið ánægjulegt að sjá þá bjarga sér frá falli í sumar. Helst vill hann þó sjá Njarðvíkinga í 1. deild, þar eigi þeir heima. Ingvar er alinn upp hjá Frey Sverrissyni ef svo má segja, en sá síðarnefndi var um árabil þjálfari yngri flokka hjá Njarðvík, þar sem hann náði frábærum árangri. Freyr fékk Ingvar og Al-
exander Magnússon, sem leikur með Grindavík, til þess að mæta á æfingu á sínum tíma. „Hann er klárlega besti yngri flokka þjálfari á landinu, þannig að maður fékk gott fótboltauppeldi,“ segir Ingvar um Frey Sverris. Landsliðið og atvinnumennska næst á dagskrá? Eins og fyrr segir hefur nánast allt gengið upp hjá Ingvari þetta sumarið. Hann segist vart vera kominn á jörðina eftir atburði undanfarinna vikna. Hann mun nú einbeita sér að landsliðinu sem hefur átt ævintýralegu gengi að fagna. „Markmiðið er að veita Hannesi (Halldórssyni) alvöru samkeppni, en hann hefur verið frábær í síðustu leikjum. Ég á vonandi nokkuð mörg ár eftir með liðinu en það er gaman að taka þátt í þessu og æfa með þessum strákum. Það að taka þátt í þessi ævintýri sem er í gangi er alveg ótrúlegt. Vonandi gerist það einn daginn að maður fái leik og geti þá sannað sig.“ Ingvar er á leið til Svíþjóðar þar sem hann mun æfa með úrvalsdeildarfélagi við toppaðstæður. Það er fyrst og fremst til þess að halda sér í formi fyrir landsliðið en þó er aldrei að vita nema atvinnumennskan sé handan við hornið. „Þessi klúbbur er í markmanns-hugleiðingum þannig að það er aldrei að vita hvað gerist. Þetta yrði frábær tími til þess að taka næsta stökk og fara í atvinnumennsku, en þá verður að bjóðast rétta tækifærið. Ef það kemur ekki upp í ár þá eru mjög spennandi tímabil framundan hjá Stjörnunni, að verja titilinn og spila í meistaradeildinni,“ segir Ingvar að lokum.
19
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 23. október 2014
-körfubolti
-frammistaða
vikunnar
Welcome home!
Damon skoraði 20 stig í heimkomunni gegn Stjörnunni.
VF-Ljósmynd: Eyþór Sæmundsson
Síðbúinn sprettur sá um Stjörnumenn XXKeflvíkingar unnu níu stiga sigur á Stjörnumönnum á heimavelli sínum í Domino's deild karla í körfubolta á mánudag. Lokatölur í leiknum 83-74 en leikurinn var jafn og spennandi allt fram að síðasta leikhluta. Þá tóku Keflvíkingar öll völd og skoruðu 27 stig í öllum regnbogans litum gegn 16 frá gestunum. William Graves, nýi erlendi leikmaður Keflvíkinga, skoraði 23 stig í leiknum og skilaði vel í öðrum flokkum tölfræðinnar. Aldursforsetarnir Gunnar Einars og Damon voru báðir í byrjunarliðinu og stóðu vel fyrir sínu. Gunnar stóð vaktina vel í vörninni á meðan Damon skoraði 20 stig.
Öruggt gegn nýliðunum á útivelli XXNjarðvík sótti sinn fyrsta sigur á móti Fjölni í Dominos deild karla í körfubolta. Njarðvíkingar voru ekki í erfiðleikum með nýliðana og lokatölur urðu 86-110, þeim grænklæddu í vil. Nýi kaninn hjá Njarðvíkingum, Dustin Salisbery, fór á kostum og skoraði 37 stig og reif niður 8 fráköst. Logi Gunnarsson bætti við 20 stigum og Hjörtur Hrafn Einarsson 15. Njarðvíkingar fá ÍR-inga í heimsókn í Ljónagryfjuna í kvöld. Gulir sjóðheitir í síðari hálfleik
Kristján áfram með Keflavík - samdi til tveggja ára XXKristján Guðmundsson mun þjálfa Keflvíkinga næstu tvö árin, en samningur þess eðlis var undirritaður í vikunni. Kristján tók við liðinu snemma sumars í fyrra og forðaði því frá fallbaráttu. Í sumar höfnuðu Keflvíkingar í sjöunda sæti eftir góða byrjun. Kristján þjálfaði Keflavík fyrst árið 2005 og var þá með liðið út árið 2009. Hann gerði Keflavík að bikarmeisturum árið 2006 og árið 2008 var liðið í 2. sæti deildarinnar. Þess má geta að hann hefur stýrt Keflavík í 167 leikjum og er með langflesta leiki sem þjálfari liðsins.
„Þetta er mikill heiður“ XXSegir efnilegasti leikmaður landsins „Þetta er virkilega mikill heiður og gott fyrir sjálfstraustið,“ segir Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson
Grindvíkingar unnu öruggan sigur á Skallagrími í fyrsta leik sínum í Domino's deild karla í körfubolta. Lokatölur urðu 109-75 fyrir heimamenn í Grindavík þar sem Magnús Þór Gunnarsson var stigahæstur Grindvíkinga með 19 stig, en þeir gulklæddu dreifðu stigaskorinu bróðurlega sín á milli. Jafnt var í hálfleik en Grindvíkingar settu í fimmta gír í þeim seinni. Þeir skoruðu 64 stig í síðari hálfleik gegn 37 frá Skallagrímsmönnum.
Sigruðu meistarana í Hólminum XXKeflvíkingar lögðu Snæfell 68-83 í Domnio's deild kvenna í körfubolta. Keflvíkingar fóru með fimm stiga forystu í hálfleik og unnu að lokum góðan baráttusigur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum í Stykkishólmi. Eftir fjórar umferðir hafa Keflvíkingar unnið þrjá leiki og tapað einum og sitja á toppi deildarinnar. Carmen Thomas var atkvæðamest Keflvíkinga með 19 stig og 12 fráköst.
83 stiga munur í fyrstu leikjum Njarðvíkinga
Ísfirðingar náðu aðeins að rétta úr kútnum undir lokin, en sigur Njarðvíkinga var afar sannfærandi. Erna Hákonardóttir fór á kostum hjá Njarðvíkingum en hún skoraði 32 stig, þar af fimm þriggja stiga körfur og nýtti hún skot sín einstaklega vel. Njarðvíkingar hafa fullt hús stiga eftir tvær umferðir í deilinni, en á dögunum vannst yfirburðasigur á FSU/Hrunamönnum. Þar urðu lokatölur 35-78 og skoraði Erna þá 22 stig.
Slæmur lokakafli kostaði Grindvíkinga sigurinn
ÍRB á þriðjung landsliðsmanna í sundi XXSundsamband Íslands hélt um sl. helgi æfingabúðir fyrir landsliðsfólk í sundi. Öllum sund-
N
jarðvíkingurinn Ingvar Jónsson var kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins í knattspyrnu á verðlaunahófi KSÍ í vikunni, en hann var af flestum talinn besti maður Íslandsmeistara Stjörnunnar í sumar. Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson var kjörinn efnilegastur leikmanna Pepsi-deildarinnar á sama hófi en hann átti frábært sumar. Njarðvíkingurinn röndótti, Óskar Örn Hauksson var svo kjörinn prúðasti leikmaður deildarinnar. Óskar varð einmitt bikarmeistari með KR. Vel gert hjá þessum piltum.
XXGrindvíkingar töpuðu 59-71 fyrir Haukum á heimavelli sínum í Domino’s deild kvenna í körfubolta í síðustu viku. Skemmst er frá því að segja að leikurinn var jafn allt þar til í lokin, en Grindvíkingar skoruðu þá aðeins sjö stig í lokaleikhlutanum, gegn 22 frá Haukum. Rachel Tecca var atkvæðamest Grindvíkinga með 22 stig og 11 fráköst.
XXNjarðvíkurkonur unnu afar sannfærandi sigur á KFÍ í 1. deild kvenna í körfubolta. Munurinn var 40 stig þegar uppi var staðið, 81-41, þar sem gestirnir frá Ísafirði skoruðu aldrei yfir tíu stig í þremur fyrstu leikhlutunum. sem í gær var valinn efnilegasti leikmaður Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. Elías er staddur í Noregi þessa dagana á reynslu hjá norska úrvalsdeildarliðinu Vålerenga. Elías segist hafa verið nokkuð hissa en um leið ánægður þegar hann heyrði af tilnefningunni en faðir hans hringdi í hann og færði honum tíðindin. „Það er yfirleitt alltaf gaman að heyra í honum sama hvað hann hefur að segja, sérstaklega þegar hann er með svona góðar fréttir,“ segir Elías. Hann var sáttur við eigin frammistöðu í sumar þó alltaf megi gera betur. „Ég mun klárlega reyna það á næsta tímabili,“ bætir framherjinn við en óvíst er þessa stundina hvort það verði hjá Keflavík eða í Noregi, en Elías er þó samningsbundinn Keflvíkingum.
SUÐURNESJAMENN BESTIR OG PRÚÐASTIR Í FÓTBOLTANUM
mönnum sem tóku þátt í landsliðsverkefnum 2013-2014 var boðið, en þar á meðal voru 14 sundmenn frá ÍRB af 41 manna hóp.
Hólmar er á heimleið Guðjón Árni fylgir honum líklega XXKeflvíkingar hafa svo gott sem gengið frá samningi við miðjumanninn Hólmar Örn Rúnarsson sem leikið hefur með FH undanfarin þrjú ár. Hólmar er alinn upp hjá Keflavík og á að baki rúmlega 180 leiki með félaginu í meistaraflokki. Þorsteinn Magnússon hjá knattspyrnudeild Keflavíkur sagði í samtali við Víkurfréttir að samningar væru í höfn og líklega skrifað undir þegar Hólmar kæmi heim erlendis frá á næstunni. Þorsteinn staðfesti einnig að liðið væri í viðræðum við Guðjón Árna Antoníusson liðsfélaga Hólmars hjá FH, en Guðjón lék með Keflavík frá árunum 2002-2011. „Ég er vongóður um að Guðjón komi en við höfum þegar rætt við hann,“ sagði Þorsteinn.
Fjórir úr Keflavík fengu svarta beltið -Yfirþjálfari Keflavíkur fékk meistaragráðu í taekwondo.
T
aekwondosamband Íslands hélt svartbeltispróf sl. laugardag. Átta iðkendur tóku að þessu sinni próf frá þremur félögum, þar á meðal fjórir frá Keflavík. Helgi Rafn Guðmundsson, yfirþjálfari Keflavíkur til margra ára, tók 4. dan, sem er meistaragráða í taekwondo, á svarabeltisprófi um helgina. Það er mikill árangur fyrir Keflavíkurdeildina að hafa þjálfara með þessa gráðu, en örfáir Íslendingar hafa náð meistaragráðu í taekwondo.
Að sögn Helga Rafns var prófið erfitt en allir iðkendur stóðust það að lokum. Próftakar frá Keflavík voru: Daníel Arnar Ragnarsson 1. poom svartbeltisgráða Ólafur Þorsteinn Skúlasson 1. dan svartbeltisgráða Ægir Már Baldvinsson 1. dan svartbeltisgráða Helgi Rafn Guðmundsson 4. dan svartbeltisgráð
+ www.vf.is
83% LESTUR
vf.is
-mundi Góður „Útsvarssnúningur“ Baldur. Frí gisting fyrir þig á Hótel Njarðvík á Þórustígnum.
FIMMTUDAGINN 23. OKTÓBER 2014 • 41. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
Tækjadagar
20- 40%
í Múrbúðinni 40%
VIKAN Á VEFNUM Baldur Þórir Guðmundsson Í síðasta Útsvarsþætti varð mér á að nefna þann bæjarhluta sem ég kenni mig við og ærði þannig óstöðuga íbúa annarra bæjarhluta. Þetta var ekki með ráðum gert og var algjörlega ómeðvitað. Ég tók ekki eftir þessu fyrr en mér var bent á þetta. Ég var einfaldlega með hugann við að gleyma ekki að minnast á Hótel Keflavík sem var að gefa gjafabréf og sagði því óvart Keflavík aðeins of oft. Þetta var ekki illa meint og ég er fullmeðvitaður um að bærinn okkar heitir Reykjanesbær. Hinsvegar, hefði ég meðvitað ætlað að stríða íbúum annarra bæjarhluta þá tókst mér einstaklega vel til. Íris Eggertsdóttir Strákarnir búnir á því eftir göngutúrinn
Drive hornalaser 90 gráður
AFSLÁTTUR
AFSLÁTTUR
12.450
GMC 14,4V 1,2Ah með aukarafhlöðu, stiglaus hraði, BMC taska
9.960
5.990
Drive gíraffi gips- og spartl slípivél 620w 0-980sn/min
3.594
Rafhlöðuborvél með höggi, HDA2544 18V
34.900
17.900
13.425
27.920
Drive-HM-140 1600W 14cm hræripinni - 2 hraðar
22.990
18.392
11.900
8.925
Drive Delta Sander 180W
3.390
ALM18DB 18V Li-Ion borvél 2,8Ah / 38Nm
2.542
39.990
29.992
36.890
22.134 Rafhlöðuborvél /skrúfvél HDD 3213 12V DIY
8.990
AV226 800W höggborvél
6.742
16.900
12.675
41.800
Asaki AN871 180mm Slípirokkur 2200w
AS103 370W 10mm borvél SM-RLG07 Áltrappa 7 þrep, tvöföld
Drive LG3-70A 1800W flísasög 86x57cm
Drive flísasög 600W
9.290
4.990
3.742
6.967
139.900
83.940
64407
995
696
63102 4 bönd með krókum 2,5x360 cm
40%
AFSLÁTTUR
Asaki ASM 305 Asaki Kúttsög 1600W 305x30mm
1.743
#
víkurfréttir
10.417
AFSLÁTTUR
2.490
Teitur Örlygsson (@teitur11) Ráðherra sem þolir ekki að vera kölluð "vélbysskjaftur" tekur sig bara til og kaupir vélbyssur. #beatthat #skákogmát
13.890
40%
31.350
20.472
Bjarni Halldór (@bjarnihalldor) Ef skólameistarinn í Verzló sæi nemendafélagsskrifstofuna í FS þyrfti hann að fá áfallahjálp
ALM14DF 14,4V Li-Ion herðsluskrúfvél 2,8Ah 135Nm
AR636 18V Skrúfvél Ni-Cd 2,0Ah 158Nm
12.742
25.590
Örvar Þór Kristjánsson Gárungarnir tala um að það væri best að leysa þetta með að láta Keflvíkinga fá íbúð í Ólafslundi þar sem þeir sækja í sífellt eldri leikmenn.
AFSLÁTTUR
16.990
ALM18DD 18V höggborvél Li-Ion 2,8Ah 38Nm 2 hraðar
40%
Fræsari HDA1205 1800W
Drive LG4-570A 800W flísasög 79x39cm borð
39.900
29.925
49.909
29.994 RLA-05 Áltrappa 5 þrep, tvöföld
6.690
40%
Drive Pro 600mm flísaskeri í tösku
5.352
AFSLÁTTUR
21.990
Ryk/blautsuga Drive ZD10-50L 1000W, 50 lítrar
28.900
17.340
Stingsög HDA1110, 710W
8.900
40%
6.675
AFSLÁTTUR
Arges HDA2201 steinsög 1200w Öflugar hjólbörur 90 lítra
Black&Decker háþrýstidæla max bar 150
8.590
52.990
6.872
42.392
16.492 Arges HKV-100GS15 1000W, 15 lítrar
25.900
20.720
7.990
4.794
2100W, 420 lítr./klst. Þolir 50°C heitt vatn, 8 metra málmbarki, sápubox, með bursta
Fuglavík 18. Reykjanesbæ
Opið 8-18 virka daga
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Neytendur athugið! Múrbúðin selur allar vörur sínar á lágmarksverði fyrir alla, alltaf. Gerið verð- og gæðasamanburð!
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001