Skip to main content

42 tbl 2016

Page 1

• fimmtudagurinn 27. október 2016 • 42. tölublað • 37. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Jákvætt viðhorf íbúa á Suðurnesjum Loftmynd af iðnaðna svæðinu í Helguvík. VF-mynd: elg

Sýknuð af kröfu AGC vegna Helguvíkur

Meirihluti íbúa á Suðurnesjum hefur jákvætt viðhorf til sveitarfélagsins og er viðhorfið jákvæðast í Grindavík en síst í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í íbúakönnun sem gerð var á Suðurnesjum í september af SSV ráðgjöf og Háskólanum á Akureyri. Könnunin sem er samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, Norðurlandi og Suðurnesjum var send til 1500 íbúa en alls tóku 1018 þátt sem er 67,9% svarhlutfall. Gáfu þátttakendur sveitarfélögunum einkunn á skalanum 1 - 7 þar sem 7 var að öllu leyti jákvætt, 6 mjög jákvætt og 5 frekar jákvætt. Meðaltal þátttakenda var 5,29 og má því telja viðhorf íbúa á Suðurnesjum sé nokkuð jákvætt á heildina litið. Íbúar í Grindavík gáfu sveitarfélaginu einkunnina 5,52, íbúar í Sandgerði 5,27, íbúar í sveitarfélaginu Garði 5,38 og íbúar í Reykjanesbæ 5,03. Athygli vekur að viðhorf íbúa af erlendum uppruna er jákvæðara til sveitarfélagsins en Íslendinga og þá er viðhorf þátttakenda á aldrinum 35-44 ára og 65 ára og eldri jákvæðara en annarra aldurshópa.

Þegar spurt var um álit á búsetuskilyrðum eftir málaflokkum voru eftirfarandi þættir metnir bestir: Friðsæld, náttúra, umferð, öryggi, farsími og bókasöfn, þar sem friðsæld fékk hæstu einkunn. Af tíu verstu búsetuskilyrðum fékk málaflokkurinn launatekjur verstu einkunn, þar á eftir kom fjárhagsvandi og framfærsla, afþreying, háskóli og íbúðir. Þeir málaflokkar sem höfðu áhrif á áframhaldandi búsetu voru: Öryggi, friðsæld, örugg umferð, mannlíf, atvinnuöryggi, internet, heilsugæsla, umferð, launatekjur og íþróttir. þeir tíu málaflokkar sem höfðu síst áhrif á áframahaldandi búsetu voru: fjárhagsvandi, tónlistarskóli, félagsheimili, íbúðir, atvinnuleysi, framhaldsskóli, útlendingar, leiguíbúðir, atvinnurekstur og háskóli.

■■Reykjaneshöfn, Reykjanesbær og Thorsil ehf. hafa verið sýknuð af kröfu Atlantic Green Chemicals [AGC ehf.] með dómi Héraðsdóms Reykjaness 19. október síðastliðinn. AGC ehf. var jafnframt dæmt til að greiða stefndu hverju um sig málskostnað. AGC ehf. hugðist reisa lífalkóhól- og glýkólverksmiðju í Helguvík og hafði augastað á lóðinni Stakksbraut 4, síðar Berghólabraut 4. Samningurinn var ekki bindandi og úthlutaði Reykjaneshöfn Berghólabraut 4 til Thorsil ehf. Í viðræðum við ráðamenn Reykjanesbæjar hafði stefnandi AGC ehf. talið að vilyrði fyrir lóðinni Berghólabraut 4 væri bindandi og fæli í sér forgangsrétt varðandi úthlutun lóðarinnar. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að viljayfirlýsing Reykjaneshafnar fæli einungis í sér að höfnin væri reiðubúin að úthluta lóð til AGC ehf. ef um semdist og því ekki um skuldbindandi samning um úthlutun lóðarinnar að ræða á milli aðila. Þetta var í annað sinn sem AGC ehf. hefur uppi kröfur af þessum toga á hendur Reykjaneshöfn, Reykjanesbæ og Thorsil ehf. Með dómi Hæstaréttar sem kveðinn var upp þann 26. nóvember 2015 var kröfum AGC ehf. á hendur þessum aðilum vísað frá dómi.

Gengið inn í veturinn ■■Haustið er að kveðja og vetur genginn í garð. Veðrið síðustu daga hefur verið fjölbreytt eins og dagarnir. Þegar viðrar er hressandi að stunda útivist. Gönguferðir um sitt nánasta umhverfi eru heilsusamlegar. Þessi mynd var tekin við Sjávargötu í Njarðvík með húsin á Borgarvegi í baksýn. VF-mynd: Hilmar Bragi

Stærsta mötuneyti Íslands á Keflavíkurflugvelli

FÍTON / SÍA

■■Isavia leitar eftir áhugasömum aðila til að sjá um rekstur mötuneytis fyrir starfsfólk á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða tvö rými til útleigu undir mötuneyti sem allir starfsmenn á Keflavíkurflugvelli hafa aðgang að. Um 6000 manns starfa í dag á Keflavíkurflugvelli og fer þeim fjölgandi. Innan fárra ára verður Keflavíkurflugvöllur stærsti einstaki vinnustaður á Íslandi. Í auglýsingu frá Isavia eru áhugasamir hvattir til að senda inn umsókn fyrir 31. október næstkomandi.

einföld reiknivél á ebox.is

Óskað eftir stuðningi ríkisins við Reykjanes geopark ●●sitjum ekki við sama borð og önnur svæði Bæjarstjórar á Reykjanesi funduðu með forsætisráðherra í síðustu viku þar sem óskað var eftir sambærilegum stuðningi við Reykjanes Geopark og veittur hefur verið Kötlu Geopark en skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um fimm ára stuðning ríkisins að upphæð 100 milljónir við jarðvanginn.

Róbert Ragnarsson bæjarstjóri í Grindavík og formaður stjórnar Reykjanes Geopark skorar á frambjóðendur til Alþingis að gæta samræmis í framlögum milli svæða. „Ég fagna því að ríkið hafi viðurkennt mikilvægi geoparka með þessu framlagi sem mun renna styrkum stoðum undir rekstur og framþróun Kötlu

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Geopark. Enn einu sinni fær Reykjanes hinsvegar þau skilaboð frá ríkinu að við sitjum ekki við sama borð og önnur svæði.“ Undir þetta tekur Eggert Sólberg Jónsson verkefnastjóri Reykjanes Unesco Global Geopark sem óskar Kötlu geopark til hamingju með tímabæra viðurkenningu ríkisins. Hann segist þó jafnframt ósáttur við að Reykjanes Geopark sé eina svæðið á lista UNESCO sem ekki er á fjárlögum. „Ég leyfi mér að vera sár út í forsætisráðherra og fyrsta þingmann Suðurkjördæmis sem segir að ekki standi til að styðja við Reykjanes Geopark á nokkurn hátt.“ Katla geopark var stofnaður árið 2010 og er fyrirmynd að Reykjanes geopark sem stofnaður var árið 2012 og hefur hlotið vottun UNESCO.

Sjúkraflutningar frá flugstöðinni 10% útkalla ■■Sjú k r af lutning um á ve g um Brunavarna Suðurnesja hefur fjölgað umtalsvert á árinu miðað við undanfarin ár. Fjöldi flutninga á síðasta ári var 2.276. Um miðjan þennan mánuð síðastliðinn var fjöldinn á árinu kominn í 2.091. Árið 2013 voru 5 prósent sjúkraflutninga á vegum Brunavarna Suðurnesja úr flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Það hlutfall hefur aukist jafnt og þétt og hefur verið 10,5 prósent það sem af er þessu ári. Júlímánuður hefur verið sá annasamasti það sem af er þessu ári en þá voru útköllin 258 samanborið við 210 í júní. Mun fjöldi útkalla í júlí hafa verið nokkuð óvenjulegur þar sem yfirleitt er minna að gera við sjúkraflutninga yfir sumartímann. Á Facebook-síðu Brunavarna Suðurnesja má nálgast nánari upplýsingar um fjölda útkalla.


2

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 27. október 2016

Áætla að kostnaður við jarðstreng sé meiri en við loftlínu ●●Landsnet hefur borið saman þrjá kosti Suðurnesjalínu 2 Kostnaður við lagningu Suðurnesjalínu 2 sem jarðstrengs er töluvert hærri en sem loftlínu, samkvæmt nýlegri skýrslu Landsnets þar sem bornir eru saman þrír valkostir; jarðstrengur samhliða þeim háspennulínum sem fyrir eru, jarðstrengur að mestu meðfram Reykjanesbraut og loftlína sem liggur meðfram Suðurnesjalínu 1. Í skýrslunni eru möguleikarnir bornir saman á ýmsan hátt, þar á meðal kostnaður við framkvæmdina sem nær frá Hrauntungum í Hafnarfirði að Rauðamel. Niðurstaðan er sú að stofnkostnaður við jarðstreng meðfram Suðurnesjalínu 1 er metinn um 3,5 milljarðar króna, 3,7 milljarðar við jarðstreng meðfram Reykjanesbraut og 1,7 milljarðar við loftlínu. Í skýrslunni segir að allar tölur um kostnað séu nokkurri óvissu undirorpnar en að meiri reynsla sé komin af byggingu loftlína en lagningu jarðstrengja og tölur um kostnað við þær því áreiðanlegri. Varfærið mat gerir ráð fyrir því að loftlínurnar endist í 60 ár. Almennt mæla framleiðendur jarðstrengja með því að gert sé ráð fyrir að þeir endist í 40 ár. Í áætlunum sínum hefur Landsnet gert ráð fyrir að Suðurnesjalína 2 verði loftlína við hlið þeirrar eldri, Suðurnesjalínu 1. Ekki fékkst samþykki allra landeigenda á Vatnsleysuströnd fyrir lagningu loftlínunnar og hafa áætlanir um framkvæmdina verið umdeildar

Tveggja til fjögurra vikna bið eftir tíma hjá lækni ●●Haustin alltaf álagstími hjá HSS ●●Biðtími eftir símatíma er ein vika

og öll skref í ferlinu verið kærð, annað hvort til dómsstóla eða úrskurðarnefnda. Nú síðast féll dómur í Hæstarétti þann 13. október þar sem ógild var ákvörðun Orkustofnunar um að veita Landsneti leyfi til að reisa og reka Suðurnesjalínu 2. Út frá tölfræði um truflanir í rekstri jarðstrengja er líklegt að yfir 40 ára tímabil gætu orðið 3 til 4 bilanir og samtals gæti jarðstrengur verið úr rekstri í um 1.200 klukkustundir eða í um tvo mánuði. Í skýrslunni segir að verulegur kostnaður verði af bilunum af þessari stærðargráðu og því mikilvægt að til staðar sé önnur raflína til að minnka áhrif þeirra. Þá kemur

fram að líklegt sé talið að yfir 40 ára tímabil gætu orðið fjórar til fimm bilanir á loftlínu og að hún gæti verið úr rekstri í tæpan sólarhring. Raforkuspá fyrir Suðurnesin gerir ráð fyrir að álag aukist um 100 prósent frá árinu 2014 til 2050. Í skýrslunni kemur fram að á Suðurnesjum þurfi Landsnet að bregðast við nokkrum áformum stjórnvalda og sjá til þess að flutningskerfi raforku hafi flutningsgetu í samræmi við áætlanir. Meðal þessarra áætlana eru kísilver Thorsil og stækkun á kísilveri United Silicon. Þá kunna stór gagnaver að bætast við. Skýrsluna má nálgast á vef Landsnets.

Börnin fengu að njóta vafans

●●viðurkennt gúmmíkurl í stað úrgangsdekkjakurls á gervigrasvelli

Viðurkennt gúmmíkurl er komið á sparkvelli í Grindavík sem áður voru með úrgangsdekkjakurli sem læknar höfðu varað við. Í Grindavík voru tveir sparkvellir með úrgangsdekkjakurli sem læknar hafa varað við, annar völlurinn er frá árinu 2006 og hinn 2010. Grindavíkurbær ákvað við gerð fjárhagsáætlunar í

fyrra að vera til fyrirmyndar og leyfa börnunum að njóta vafans og skipta gúmmíkurlinu út í ár, sem er í samræmi við beiðni stjórnar Heimilis og skóla og ályktun umboðsmanns barna og Læknafélags Íslands. Í sumar var skipt bæði um gervigras og gúmmíkurl á eldri vellinum. Á nýrri vellinum var dekkjakurlið ryk-

sugað burt og gúmmí af viðurkenndri gerð sett í staðinn, þ.e. ljóst að lit og án efna sem teljast skaðleg heilsu eða mengandi. Er það í samræmi við samþykkt stjórnar KSÍ frá því í fyrrahaust. Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkur fagnar því að börnin í Grindavík hafi fengið að njóta vafans, segir í gögnum nefndarinnar frá síðasta fundi hennar.

Boðið er upp á tíu mínútna Tvær til fjórar vikur getur hraðtíma á dagtíma á HSS í tekið að bíða eftir bókuðum Reykjanesbæ sem bókað er tíma hjá lækni á dagtíma á í samdægurs. Að sögn HallHeilbrigðisstofnun Suðurdórs eru þeir tímar í boði nesja í Reykjanesbæ þegar flesta virka daga ársins. Þá álagið er hvað mest. Um er síðdegisvakt á virkum þessar mundir er biðtíminn dögum og um helgar en þar um tvær vikur en eftir símaer gert ráð fyrir um það bil tíma ein vika. Að sögn Halltíu mínútna tímum sem ekki dórs Jónssonar, forstjóra er bókað í fyrirfram. Þeir HSS, er biðtíminn töluvert breytilegur og fer eftir Halldór Jónsson, tímar kosta 1.900 krónum meira en bókaður tími, sé því hvernig mönnun er á forstjóri HSS. miðað við almennt verð. hverjum tíma og eftirspurn eftir þjónustu. Biðtíminn var stuttur síðasta sumar á HSS í Reykja- Auk þess að bjóða upp á heilbrigðisnesbæ og er almennt stuttur í Grinda- þjónustu í Reykjanesbæ og Grindavík er opið einu sinni í viku hjá HSS í vík. Halldór segir haustin yfirleitt vera Vogum. Að þjónustu HSS koma ýmsar álagstíma á HSS. „Um mánaðamótin fagstéttir, svo sem læknar, hjúkrunarágúst/september hættir sumarstarfs- fræðingar, ljósmæður, sálfræðingar, fólk, þar á meðal læknar og lækna- sjúkraliðar, geislafræðingar, lífeindanemar, sem leiðir af sér einhverja fræðingar og fleiri. Bráðamóttaka á fækkun. Auk þess eru alltaf einhverjar HSS Reykjanesbæ er opin alla daga hreyfingar á læknum og/eða lengri fyrir bráðatilfelli. Halldór segir alltaf leyfi. Þannig hefur það verið og því verið að leita leiða til að tryggja næga færri læknar við störf en verið hefur. mönnun og styrkja þannig þjónustAlmennur skortur er á læknum og una. „Það er hins vegar verkefni sem framboð því minna en eftirspurn,“ á sér engan endi og viðleitni okkar og segir Halldór. Þá þurfa sérnámslæknar vinna heldur því áfram með það að á HSS að taka hluta af sínu námi á leiðarljósi að styrkja og bæta þjónustu Landspítala og eru því fjarverandi frá Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja við námi og störfum á HSS þann tíma. íbúa svæðisins.“ Það á við um einn sérnámslækni á HSS um þessar mundir.

Samsung Galaxy Note 7 bannaður í ferðum frá Keflavík

- fyrir frjálslynt fólk

Viðreisn á Kjördag

■■Íslensku flugfélögin WOW air og Icelandair hafa bætt sér í hóp fjölda flugfélaga sem banna farþegum sínum að koma með Samsung Galaxy Note 7 síma um borð véla sinna, hvort sem farþeginn er með símann á sér, í handfarangri eða tösku sem sett er í farangursrými. RÚV vitnar í heimasíðu Icelandair, sem segir á heimasíðu sinni að þeim sem reyni vísvitandi að ferðast með slíka síma til Bandaríkjanna og Kanada verði vísað frá borði.

ATVINNA

Kosningavaka Viðreisnar verður á Ránni í Reykjanesbæ Kaffi og kökur verða frá 14-17 Kosningavaka byrjar kl 21:00 Frambjóðendur verða á staðnum Allir velkomnir

VIÐREISN | www.vidreisn.is

Íslenskir aðalverktakar óska eftir dugmiklu og ábyrgðarmiklu starfsfólki á járnaverkstæði ÍAV upp á Ásbrú. Óskað er eftir járn- og málmiðnarmönnum jafnt sem vönum starfskröftum með eða án réttinda. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf í þjónustu-, viðhalds- og nýframkvæmdum á Suðurnesjum og Flugstöð Leifs Eiríkssona Eiríkssonar.

Upplýsingar veitir Einar Ragnarsson í síma 617 8943 eða í tölvupósti einar.ragnarsson@iav.is


Við erum á réttri leið! Á næsta kjörtímabili þarf að viðhalda þeim árangri sem náðst hefur og um leið, styrkja innviði kjördæmisins. Við munum leggja okkar af mörkum til að brýn málefni kjördæmisins verði sett á oddinn. Höldum áfram því sem vel gengur – við erum á réttri leið! Setjum x við D í kosningunum á laugardaginn.


markhönnun ehf

Úrvalið er hjá okkur... -17%

Þú færð helgarsteikina hjá okkur

-16%

LAMBAHRYGGUR FROSINN - HEILL ÁÐUR: 2.279 KR/KG KR KG

LAMBABÓGUR - KRYDDAÐUR ÁÐUR: 1.294 KR/KG KR KG

1.087

-20% LAMBASVIÐ FROSIN ÁÐUR: 498 KR/KG KR KG

1.892

-34%

-40%

398

-26%

BJÚGU 6 STK - 1.260 KG ÁÐUR: 899 KR/PK KR PK

593

DILKALIFUR - FROSIN ÁÐUR: 598 KR/KG KR KG

359 LAMBAKÓTELETTUR Í RASPI ÁÐUR: 2.698 KR/KG KR KG

1.997

LAMBAKÓTELETTUR ÁÐUR: 2.298 KR/KG KR KG

HVÍTLAUKSBRAUÐ - 2 STK ÁÐUR: 249 KR/KG KR PK

199

1.999

FRANSKAR KARTÖFLUR Í OFN - 1 KG ÁÐUR: 399 KR/KG KR PK

299

LAY’S SNAKK - 175 G 3 TEGUNDIR ÁÐUR: 299 KR/PK KR PK

269

CADBURY FINGERS - 114 G ÁÐUR: 198 KR/PK KR PK

PEPSI/PEPSI MAX - 0,5 L ÁÐUR: 119 KR/STK KR STK

95

149

Grænmetisbuff - tilbúið beint í ofninn NÝTT Í

TILBOÐS VERÐ

FRUCTIS SJAMPÓ 7 TEGUNDIR KR STK

289

GRANDIOSA PIZZUR 5 TEGUNDIR ÁÐUR: 789 KR/STK KR STK

598

EKKO GOURMET VEGAN BUFF - 340 G TVÆR GERÐIR - FROSIÐ ÁÐUR: 689 KR/PK KR PK

349

Tilboðin gilda 27. – 30. október 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

-


R G G

G

Nautakjöt á frábæru verði

-34%

-40% FRÁBÆRT

VERÐ STJÖRNUGRÍS SÆNSK SKINKA ÁÐUR: 1.998 KR/KG KR KG

1.199 NAUTA RIB EYE, FROSIÐ LÍTIL STYKKI Í HEILU ÁÐUR: 2.998 KR/KG KRKR KGKG

1.979

KENGÚRU FILLE ÁÐUR: 3.998 KR/KG KR KG

2.999

Kengúrufillet og andabringur

KJÚKLINGABRINGUR ÁÐUR: 2.098 KR/KG KR KG

1.951

ANDABRINGUR - 2 STK SAMAN BARBARY ÁÐUR: 2.998 KR/KG KR KG

2.698

FLÓRIDANA HEILSUSAFI - 1 L ÁÐUR: 237 KR/STK KR STK

209

-10%

ELDHÚSRÚLLA - 97 M GIGANT JUMBO ÁÐUR: 599 KR/STK KR STK

479

EMMESS GAMALDAGS ÍS VANILLU/KARAMELLU - 1L ÁÐUR: 699/677 KR/PK KR PK

599 Allar Betty Crocker vörur á 10% afslætti

Appelsínur á tilboði

ÄNGLAMARK BER FROSIN - 3 GERÐIR KR PK

349

Ber í boostið

-46% APPELSÍNUR ÁÐUR: 239 KR/KG KR KG

129 www.netto.is

Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hafnarfjörður · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss


6

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 27. október 2016

Íbúar í Vogum hamingjusamastir á Suðurnesjum Íbúar í Vogum eru hamingjusamastir á Suðurnesjum samkvæmt íbúakönnun.sem gerð var af Háskólanum á Akureyri og SVV ráðgjöf í september sl. en niðurstöður hennar voru kynntar á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem fram fór dagana 14. - 15. október. Íbúar í Vogum gáfu hamingjunni einkunnina 8,17 á skalanum 1-10 þegar horft er til allra þátta, næst á eftir komu íbúar í Grindavík með 8,12 í einkunn, því næst íbúar í Sandgerði með 7,93, þá Reykjanesbær með 7,87 og Garðbúar reka lestina með 7,54 í hamingjueinkunn. Íslendingar eru hamingjusamari en íbúar af erlendum uppruna eða 7,93 á móti 7,64 og karlar eru aðeins hamingjusamari en konur með einkunina 7,96 á móti 7,88 hjá konum. Hamingjan virðist aukast eftir aldri, en hamingjusamastir voru íbúar á aldursbilinu 65 og eldri og því næst

íbúar 55 - 64 ára. Íbúar á aldrinum 45 til 54 og 35 – 44 eru á svipuðu róli en hamingjan minnkar þó nokkuð í aldursflokknum 24 – 34 og minnst er hún í yngsta aldursflokknum 18 - 24 ára sem gefa hamingjunni 7,49 í einkunn á móti 8,09 hjá elsta aldursflokknum.

Málþing Lions um lestrarvanda í Íþróttaakademíunni

Fjölmenni á kvennafrídegi ●●Skipulögðu baráttufund með stuttum fyrirvara Fjöldinn allur af konum og nokkrir karlar komu saman í ráðhúsinu í Reykjanesbæ síðasta mánudag í tilefni af Kvennafrídeginum. Þar var sýnt beint frá baráttufundi um kjarajafnrétti sem haldinn var við Austurvöll í miðbæ Reykjavíkur. Þær Anna Margrét Ólafsdóttir og Linda Björk Pálmadóttir fengu þá hugmynd á mánudagsmorgun að halda fundinn í Reykjanesbæ og komu skilaboðunum áfram með hjálp samfélagsmiðla og var orðið fljótt að berast. „Það voru greinilega margar konur að hugsa um launamuninn og vilja berjast gegn honum,“ sagði Anna. Hjá fjölda fyrirtækja og stofnana var lokað eftir klukkan 14:00 á Kvennafrídaginn, þar á meðal hjá Landsbankanum í Reykjanesbæ, Bóka-

Ráðist í viðhald og endurnýjun búnaðar í Vogum ●●eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði Drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 hjá Sveitarfélaginu Vogum eru nú farin að taka á sig mynd. Bæjarráð hélt fund í vikunni sem leið þar sem áfram var unnið með áætlunina, m.a. farið yfir búnaðarkaup og viðhaldsframkvæmdir. „Það er mikilvægt að sinna viðhaldi mannvirkja í eigu sveitarfélagsins, ella er hætta á að þau liggi undir skemmdum og viðhaldsþörfin hlaðist upp. Nú standa vonir til þess að unnt verði að taka myndarlega á þessum þáttum í rekstrinum, bæði hvað varðar viðhald og endurnýjun búnaðar,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjar-

■■Lionshreyfingin á Íslandi tekur þátt í alþjóðlegu verkefni sem felst í lestrarátaki og baráttu gegn treglæsi. Haldið verður málþing laugardaginn 5. nóvember í Íþróttaakademíunni, Krossmóa 58 í Reykjanesbæ frá klukkan 10:30 til 13:00. Meðal fyrirlesara verða Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur og formaður Ibby á Íslandi, og Sigrún Jóhannsdóttir talmeinafræðingur og framkvæmdastjóri TMF Tölvumiðstöðvar.

safninu í Reykjanesbæ, Duus-húsum og á leikskólum. „Það var frábært hversu margar mættu. Það gátu ekki allar farið til Reykjavíkur til að taka þátt í baráttufundinum en greinilega margar sem vildu sýna samstöðu,“ sagði Linda. Kvennafrídagurinn var fyrst haldinn hér á landi 24. október árið 1975 og er talið að um 25.000 konur hafi safnast saman í miðbæ Reykjavíkur þann dag. Hann er jafnvel talinn einn stærsti útifundur Íslandssögunnar. Langflestar konur lögðu niður störf þann dag og atvinnulífið lamaðist. Sams konar baráttufundir voru haldnir síðasta mánudag víða um land. Að Kvennafrídeginum standa ýmis samtök launafólks og kvenna.

stjóri í Vogum í vikulegu fréttabréfi sem hann gefur út. Nýframkvæmdir eru einnig til skoðunar hjá bæjarráði, þar kemur meðal annars til álita að ráðast í gatnagerð á miðbæjarsvæði og úthluta á næsta ári lóðum til íbúðabygginga. „Nánast ekkert hefur verið byggt af íbúðarhúsnæði frá því fyrir hrun, nú er svo komið að eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði er mikil enda talsverð fólksfjölgun bæði hér og í landshlutanum,“ segir Ásgeir. Fjárhagsáætlunin var lögð fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Voga í gærkvöldi.

Könnunin er samstarfsverkefni sveitarfélaga á Suðurnesjum, Norðurlandi og Vesturlandi og fór hún fram í lok september. Alls svöruðu 1018 af 1500 og var svarhlutfall því 67,9%. Íbúar í vogum voru 1186 talsins í september 2016.

Frá síðasta maraþonsundi Sunddeildar Grindavíkur. VF-mynd: Hilmar Bragi

Maraþonsund í tvo sólarhringa í Grindavík Sunddeild Grinavíkur stendur fyrir maraþonsundi í sundlaug Grindavíkur frá klukkan 14 á föstudag, 28. október, til klukkan 14 sunnudaginn 30. október. Með maraþonsundinu ætla krakkarnir í sunddeildinni að leggja ungum manni, Jóhannesi Gíslasyni, lið í baráttu við sjúkdóm sem hann glímir við. „Jóhannes er með mjög sjaldgæfan sjúkdóm sem kallast orkukornasjúkdómur (Mitrochondrial disease) sem uppgötvaðist árið 2008 þegar sjónin hans dapraðist mjög mikið á fáum mánuðum. Hann var 8 ára þá, hress og kátur, lítill strákur. Það er mjög einstaklingsbundið hvernig sjúkdómurinn herjar á sjúklinga, en til eru um 40 til 50 mismunandi þekkt afbrigði sjúkdómsins en Jóhannes er með afbrigði sem hefur ekki enn tekist að greina annars staðar í heiminum svo vitað sé. Einstaklingar með þennan sjúkdóm eiga það sammerkt að eiga erfitt með

að nærast og fá ekki næga orku úr frumunum, í mikilvægum líffærum, mismunandi þó hvaða líffæri verða fyrir áhrifum. Í hans tilfelli, þá er hann mjög þrekskertur almennt, og hefur það ágerst með árunum. Einnig hefur sjónin versnað til mikilla muna, hann er með innan við 10% sjón við allra bestu skilyrði. Hann fékk flogaveiki fyrir nokkrum árum og svo alvarlega hjartabilun fyrir 2 árum. Það eru engar vonir til þess að hjartað muni starfa eðlilega aftur og upp á síðkastið hefur Jóhannes misst mikið þrek. Hann fer allra sinna ferða í hjólastól, nema heima við, því hann örmagnast við litla áreynslu. Læknirinn hans hefur sagt að best sé einmitt að forðast mikla áreynslu á hjartað til að létta undir með því, og vinna ekki gegn áhrifum lyfjanna sem hann tekur,“ segir í bréfi frá Sunddeild Grindavíkur.

Dagskrá málþingsins þann 5. nóvember klukkan 10:30: -Setning: Árni Brynjólfur Hjaltason, fjölumdæmisstjóri Lions. -Opnun: Helgi Arnarson, fræðslustjóri Reykjanesbæjar. -Lestrarátak Lions: Hrund Hjaltadóttir, lestrarátaksstjóri Lions. -Læsi - hvað er það? Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur og formaður Ibby á Íslandi. -Að skrifa sig til læsis: Sigrún Jóhannsdóttir, talmeinafræðingur og framkvæmdastjóri TMF Tölvumiðstöðvar. -Lestur er ævilöng iðja: Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla. -Hvað getum við öll gert til að hjálpa? Fyrirspurnir og umæður. -Slit: Árni Brynjólfur Hjaltason, fjölumdæmisstjóri Lions. Fundarstjóri er Jórunn J. Guðmundsdóttir, lestrarátaksfulltrúi 109A og er aðgangur ókeypis.

Auglýsingasíminn er

421 0001

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.


ÖLL LJÓS OG PERUR

25%

25%

AFSLÁTTUR JOSERA GÆLUDÝRAFÓÐUR

KOMDU Í HEIMSÓKN!

AFSLÁTTUR

VÍ

KU R

BR

AU T

HAFNAR

BÚSÁHÖLD

25%

AFSLÁTTUR

20%

T

FAXABRAU

AFSLÁTTUR

ÖLL MÁLNING

25% AFSLÁTTUR

R

GU

STÍ

KKA

BA

HAFNARGATA

20%

AUT

RBR

VÍKU

ÖLL

SMÁRAFTÆKI

RAFMAGNSHANDVERKFÆRI

GATA

SUÐURNES

ÖLL

GRÆNN BOSCH OG EINHELL

R EGU

VIRKA DAGA 8-18 LAUGARDAGA 10-14

EGUR

HEIÐARV

GATA BALDURS

OPIÐ

EGUR

HEIÐARV

A SUÐURGAT

FRÁBÆR AFMÆLISTILBOÐ SEM GILDA AÐEINS Í BYKO SUÐURNESJUM TIL 31.OKTÓBER.

20ára AFMÆLI

JUV GG BRY

KOMDU Í HEIMSÓKN!

AFSLÁTTUR


8

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 27. október 2016

Kaupa Garðvang á 97 milljónir króna Nesfiskur ehf. kaupir Garðvang í Garði á 97 milljónir króna. Að Garðvangi var rekið hjúkru n arhe i m i l i þar til í mars 2014 að heimilisfólkið flutti á Hrafnistuheimilið við Nesvelli í Reykjanesbæ. Síðan þá hefur Garðvangur staðið tómur. Garðvangi verður breytt í íbúðarhúsnæði fyrir starfsfólk og því má segja að húsnæði Garðvangs, sem áður hét

Grímshóll, fari aftur til upprunans því húsið var byggt sem verbúð í Garði á sínum tíma. Nú er unnið að því að leggja niður Dvalarheimili aldraðra á Suðurnesjum, DS, og er salan á Garðvangi liður í því ferli. DS eru ekki í neinum rekstri en eiga húsnæði Hlévangs í Keflavík og áttu einnig Garðvang í Garði, sem núna hefur verið seldur.

1.

Bleikt veitingafólk í flugstöðinni ●●Starfsfólk Lagardère í Flugstöð Leifs Eiríkssonar var bleikt síðasta föstudag. ■■„Við sýndum stuðning við bleiku slaufuna í dag [föstudag], allir klæddust bleikum bolum og báru bleiku slaufuna sem Lagardère gaf öllum starfsmönnum sínum,“ segir í í texta sem fylgdi meðfylgjandi mynd úr flugstöðinni.

Hildur markaðsstjóri Bioeffect

Kjósum XE Guðmund Karl Þorleifsson Hann er þinn möguleiki til að fá málsvara úr Reykjanesbæ á Alþingi Atvinnumál Íslenska þjóðfylkingin leggur mikla áherslu á að styrkja lítil og meðalstór fyrirtæki. Þetta er hægt að gera með því að stýra útboðsmálum þannig að skilgreina útboðsverkefni fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, til þess að stóru fyrirtækin geti ekki undirboðið þau mynni. Þá vill Íslenska þjóðfylkingin frjálsar strandveiðar, sem myndu styrkja byggðir landsins og búa til undirstöðu fyrir smærri fiskvinslur í landi. Heilbrigðismál Við í Íslensku þjóðfylkingunni leggjum höfuð áherslu á að færa heilbrigðisþjónustu í nær umhverfi og nýta þær stofnanir sem þegar eru til staðar á landsbyggðinni. Þá leggjum við til að grunnheilbrigðisþjónusta verði gerð gjaldfrjáls, það myndi létta mikið undir öldruðum, öryrkjum og barnafjölskyldum, sem mest þurfa á þeirri þjónustu að halda.

Ole Henriksen og Redken Hildur Ársælsdóttir hefur í Kaupmannahöfn, París verið ráðin markaðsstjóri og Los Angeles. Bioeffect, sem er dótturHildur er úr Sandgerði fyrirtæki Orf Líftækni. Viðog hefur stundað nám skiptablaðið greinir frá. á Íslandi, í Danmörku, Hildur starfaði síðast hjá Bandaríkjunum og Frakksnyrtivörurisanum L’Oréal landi, en hún lauk námi í Kaupmanna höf n, en síðustu tíu árin hefur hún Hildur Ársælsdóttir í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og námi starfað fyrir ýmis þekkt merki eins og Helena Rubenstein, í vöruþróun og markaðsmálum frá Urban Decay, NYX, La Roche Posay, F.I.D.M. í Los Angeles.

Ekið á gangandi vegfaranda ■■Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl í Keflavík snemma á laugardagsmorgun. Vegfarandinn var kominn út á götu er hann varð fyrir bifreiðinni. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem í ljós kom að hann hafði axlarbrotnað við slysið. Þegar slysið átti sér stað var dimmt, rigning og skyggni slæmt.

Tveir á sjúkrahús eftir slys Tveir voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í síðustu viku eftir að tveir bílar höfðu lent í árekstri á Þjóðbraut, skammt austan við Reykjanesbraut. Atvikið varð með þeim hætti að ökumaður annars bílsins snéri sér við til að líta til með ungu barni sínu sem sat í aftursætinu. Við það lenti bíllinn á öfugum vegarhelmingi og hafnaði á bifreið sem kom út gagnstæðri átt.

Ökumaður og farþegi síðarnefnda bílsins voru fluttir með sjúkrabifreið á HSS. Er lögreglumenn á Suðurnesjum ræddu við þann ökumann er var með barnið í bílnum vaknaði grunur um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð til skýrslutöku. Jafnframt var barnaverndarnefnd tilkynnt um málið.

Öryggismál Einnig viljum við stórefla lögreglu, tollgæslu og landhelgisgæslu, með það að markmiði að hún geti sinnt því hlutverki , sem henni er ætlað. Við höfnum opnum landamærum, viljum taka upp svipuð viðmið eins og Norðmenn, og koma í veg fyrir flóð efnahagsflóttamanna, en hjálpa þeim sem mest þurfa á okkar aðstoð að halda. Það gerum við best með því að hjálpa þeim í þeirra nærumhverfi, þar sem það fjármagn sem við leggjum í þennan málaflokk nýtist best. Önnur mál Við viljum hækka persónuafslátt þannig að tekjur allt að 300 000 kr verði gerðar gjaldfrjálsar. Þetta myndi koma öllum vel og ekki síst þeim sem minnst hafa. Þá viljum við afnema skerðingar krónu á móti krónu, fyrir aldraða og öryrkja, þannig að það fólk sem getur bætt við sig einhverjum tekjum sé ekki hengt fyrir það. Þessi framkvæmd myndi leiða til hagvaxtar fyrir ríkissjóð og gera þá sem þetta myndu nýta, ánægðari og heibrigðari þjóðfélagsþegna.

Bíó á bókasafninu í vetrarfríi ■■Vetrarfrí var í grunn- og framhaldsskólum síðastliðna helgi og bauð Bókasafn Reykjanesbæjar upp á skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Haldinn var ratleikur úr sögunni um Diddu og dauða köttinn og samnefnd kvikmynd sýnd á tjaldi. Það vakti mikla lukku, auk hrekkjavöku-grímugerðar en yfir hundrað manns komu á föstudeginum.

Meðlimum vélhjólagengis vísað frá Íslandi ■■Fjórum meðlimum vélhjólagengisins Bad Breed MC í Svíþjóð var vísað frá landi við komu á Keflavíkurflugvöll síðastliðinn föstudag. Lögreglan á Suðurnesjum færði fjórmenningana á lögreglustöð meðan skoðun fór fram. Að því loknu var þeim birtur úrskurður Útlendingastofnunar um frávísun. Þeim var fylgt um borð í flug til Stokkhólms.

Ökuréttindalaus í hraðakstri ■■Rúmlega þrítugur ökumaður, sem mældist um síðustu helgi á 121 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund, reyndist einungis hafa réttindi til að aka bifhjóli þegar lögreglan á Suðurnesjum bað hann um ökuskírteini. Átta ökumenn til viðbótar voru kærðir fyrir hraðakstur, þar af einn sem ók á 137 km hraða eftir Reykjanesbrautinni þar sem hámarkshraði er 90 km. Þá voru höfð afskipti af einum ökumanni vegna gruns um að hann væri ölvaður undir stýri.

SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER KL. 11:00 Messa og sunnudagaskóli. Súpuþjónar og fermingarforeldrar reiða fram súpa og brauð. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista og sr. Erla þjónar. SUNNUDAGSKVÖLD 30. OKTÓBER KL. 20:00 Bleikmessa í samstarfi við Krabbameinsfélag Suðurnesja. Kórfélagar syngja tesasálma undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla þjónar. MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER KL. 12:00 Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar. Súpa og brauð í boði. FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER KL. 18:00 Fer fram árleg söfnun fermingarbarna sem ganga í hús og safna aurum til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar. Takið vel á móti þeim


EINSTAKUR

Bíll á mynd: Honda Jazz Elegance

Á ALLA VEGU

Það er ekki að ástæðulausu sem nýr Honda Jazz fékk verðlaunin Besti bíllinn í sínum flokki af Euro NCAP! Í Jazz færðu ekki aðeins mesta fáanlega öryggi sem bíll í þessum stærðarflokki býður uppá! Þú færð einnig ríkulegan staðalbúnaði og eitt mesta rými fyrir farþega og farangur sem þekkist í bílum í þessum flokki! Ekki skemmir fyrir að Jazz er einstaklega hagkvæmur í rekstri en hann eyðir aðeins frá 4,6 L/100km í blönduðum akstri!* Jazz er frábær kostur fyrir þá sem vilja viðhaldslítinn og endingargóðan bíl en Jazz er fyrir löngu orðinn þekktur fyrir áræðanleika og hátt endursöluverð.

Honda Jazz

kostar frá kr. 2.840.000

Kynntu þér Jazz verðlaunabílinn frá Honda, einum áræðanlegasta bílaframleiðanda heims!

MEÐ SJÁLFSKIPTINGU

Opið laugardaga milli kl. 12:00 og 16:00

www.honda.is

Njarðarbraut 15 • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 7800 • www.bernhard.is


10

VÍKURFRÉTTIR

SNJÖLL ÖPP ÖNNU:

LAUS STÖRF BARNAVERND NJARÐVÍKURSKÓLI VELFERÐARSVIÐ AKURSKÓLI

Félagsráðgjafi Myndmenntakennari Tilsjónarmaður Heimilisfræðikennari

Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf eða beint á Ráðningavefinn https://reykjanesbaer.hcm.is/ storf/. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.

VIÐBURÐIR GLÆPASAGNAKVÖLD Í kvöld kl. 20:00 koma rithöfundarnir Yrsa og Lilja Sigurðardætur í Bókasafn Reykjanesbæjar og lesa úr nýjustu bókum sínum og spjalla. Allir gestir glæpsamlega velkomnir. OPNUN NÝRRAR INNIAÐSTÖÐU Við opnum nýja inniaðstöðu fyrir Golfklúbb Suðurnesja og Púttklúbb Suðurnesja í Íþróttaakademíunni á morgun kl. 16:30. Kylfingar vígja og haldin verður púttkeppni. Allir velkomnir. ALÞINGISKOSNINGAR 2016 Allar upplýsingar vegna kjörs til Alþingis 2016 eru aðgengilegar á vef Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is SÍÐASTA SÝNINGARHELGI Um helgina lýkur sýningunum Blómahaf, Mín eigin jörð og Sveitapiltsins draumur í Duus Safnahúsum. Safnið er opið alla daga kl. 12-17. Nánar á reykjanebaer.is/listasafn

JÓLAHLAÐBORÐ á Hótel Örk föstudagurinn 6. desember 2016

Jólahlaðborð, gisting og morgunverður 12.500.- kr. á mann í tveggja manna herbergi (aukagjald í einbýli kr. 3000.-) Rúta kr. 1500,Borðhald hefst kl. 19:30, en dvöl getur hafist kl. 16:00. Rútuferðir: Farið verður frá Garði kl. 14:00, Sandgerði kl. 14:15, Nesvöllum kl.14:30 og Vogum kl. 14:45. Skráning er hafin hjá Erni, 846-7334, Vogum. Lýdíu, 898 4654, Sandgerði. Brynju, 849 6284, Garðinum. Bjarneyju, 822 1962, Reykjanesbæ. Margrét, 869 3173, Grindavík.

fimmtudagur 27. október 2016

„Explain Everything“

er krítartafla nútímakennarans Anna Albertsdóttir er fædd og uppalin í Keflavík en er nú búsett í Laugardalnum í Reykjavík. Hún starfar sem kennari hjá Keili á Ásbrú. Keilir notast við kennsluaðferð sem kallast vendinám þar sem fyrirlestrar og allt námsefni er að finna á netinu, svo Anna grúskar mikið í alls kyns öppum til að notast við í kennslunni. Hér eru fimm góð frá Önnu. Dropbox

Ég nota dropbox mikið. Bæði fyrir öll skjöl og upptökur í vinnunni og myndir af syni mínum. Allt fer í Dropbox svo það týnist ekki þó ég flakki á milli tækja. Það er líka algjör snilld að geta hlaðið myndum þarna inn jafnóðum úr símanum mínum, það getur alltaf eitthvað komið fyrir og þá væri sárt að týna myndum sem manni er annt um.

Trello

Moodle

Veður

Frábært app til að halda utan um skipulagið. Það er í mörg horn að líta þegar maður púslar saman vinnu og einkalífi. Það minnkar stressið að vera með góða lista yfir allt sem þarf að gera. Keilir notast við Moodle kennsluvefinn til að koma kennsluefni til nemenda. Öll gögn milli kennara og nemenda fara í gegnum Moodle. Það er mjög þægilegt að geta kíkt í appið til að kanna stöðuna og klára einhver aðkallandi verkefni. Veður appið. Mér var bent á þetta app um daginn og það á eftir að koma sér vel í komandi haustlægðum og vetrarófærð. Ég keyri frá Reykjavík í vinnuna og appið sendir til-

kynningar ef mikið óveður og ófærð er í ákveðnum radíus í kringum mig. Maður leggur ekki í brautina í brjáluðu veðri.

Explain Everything

Í Explain Everyting geri ég oft upptökur fyrir nemendur. Appið er einstaklega einfalt í notkun, með „krítartöflu“ og upptöku á skjá og hljóði svo það er auðvelt að gera stuttar upptökur til að aðstoða nemendur og henda út á netið. Það er einnig hægt að taka skjáskot af skjölum og skrifa inn á, til dæmis PowerPoint glærur.

„Öll gögn milli kennara og nemenda fara í gegnum Moodle“

Afþreying:

„FRAMLENGINGIN MEÐ JONNA OG FANNARI

ER ALGJÖR VEISLA“ Marinó Oddur Bjarnason er Sandgerðingur í húð og hár en er búsettur í Garðinum ásamt kærustu sinni og 8 mánaða dóttur. Hann starfar sem leiðbeinandi á leikskólanum Gefnarborg í Garði og einnig sem liðveitandi. Marinó þjálfar 8. flokk Reynis/Víðis í fótbolta og hefur gaman af íþróttum og hestamennsku og finnst fátt skemmtilegra en að fara í laxveiði með góðum vinum. Bókin

Ég gef mér allt of lítinn tíma til að setjast niður með góða bók, en mín besta bók er klárlega I am Zlatan Ibrahimovic. Það ættu allir að lesa um þennan mikla meistara sem Zlatan er, bæði innan vallar sem utan. 10.10.10 bókin hans Loga Geirs klikkar ekki en næsta bók sem ég ætla að lesa verður Þverá & Kjarrá eftir Guðmund Guðjónsson.

Ferðanefnd

Þættirnir

Auglýsingasíminn er

421 0001

Ég gef mér ekki mikinn tíma til að horfa á þætti en Messan og Körfuboltakvöld eru þeir þættir sem ég gef mér tíma til þess að horfa á. „Framlengingin“ í Körfuboltakvöldum þegar Jonni og Fannar eru í settinu er algjör veisla!

Tónlistin

Ég er alæta á tónlist en þessa stundina er Úlfur Úlfur að „kikka“ vel inn. Annars get ég hlustað á allt. Ef það eru tónleikar sem tengjast Rúnari Júl er ég alltaf mættur. Hvað erlenda tónlist varðar þá eru Sam Smith og John Legend málið.

„MÍN BESTA BÓK ER KLÁRLEGA I AM ZLATAN IBRAHIMOVIC“


Kjósum heilbrigðara samfélag

Endurreisum heilbrigðiskerfið Gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta Efling heilbrigðistofnana í heimabyggð Þriggja milljóna króna forskot á fasteignamarkaði Raunhæf lausn til að eignast heimili Bætum kjör aldraða og öryrkja 300.000 kr. lágmarksframfærsla Fjölgun hjúkrunarýma fyrir aldraða og langveika

Við höfum efni á þessu.

Kjósum Samfylkinguna


Ítalskir

töfrar

198 kr. stk.

ES Ostapizza Frosin, 300 g

198 kr. 400 g

398 kr. 100 g

498

Ítölsk Þurrskinka 100 g

Grana Padano Ítalskur ostur, 200 g

kr. 200 g

139 kr. 24 stk.

Wewalka Pizzadeig Ferskt, 400 g

Bökunarpappír 24 arkir

4x2L

759

298

298 kr. 400 g

129

KW Pipardropar 400 g

Bónus Piparkökur 400 g

Ceres Jóla Hvítöl Danskt, 330 ml

kr. 400 g

kr. 4x2 l

Pepsi og Pepsi Max Kippa, 4x2 lítrar

kr. 330 ml

Ný sending

LÆGRA VERÐ

298

898

Nicky Eldhúsrúllur 3 rúllur í pakka - Verð áður 359 kr.

Nicky Salernispappír 16 rúllur í pakka - Verð áður 998 kr.

kr. pk.

kr. pk.

Verð gilda til og með 30. október eða meðan birgðir endast


1.898 kr. kg

298

Bónus Kjúklingabringur Ferskar

Kjörfugl Kjúklingavængir Ferskir

kr. kg

GOTT VERÐ Í BÓNUS

1Ís0le 0%

1.698 kr. kg

nskt

ungnautakjöt

Íslandsnaut Ungnautahakk Ferskt

69

kr. 400 g Tómatar 400 g, 2 tegundir

d R E V A SAM d allt um lan

259 kr. kg

Grasker

198 kr. pk.

Poco Loco Tortillakökur 4 stk. stórar eða 8 stk. litlar

Íslensktöt

Lambakj

korið SérsA I LAMB LÆR

1.398 kr. kg Íslandslamb Lambalæri Ferskt, kryddað, sérskorið

Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00


14

VÍKURFRÉTTIR

Heilluðust af gestrisni Íslendinga ●●og fannst íslenskt kaffi það besta í heimi

Með hjálp veraldarvefsins fann Árni Júlíusson tvær hálfsystur sínar í Bandaríkjunum. Víkurfréttir sögðu frá sögu Árna og systra hans, Donnu og Sherri, í fyrra en í sumar komu þær í heimsókn til Íslands. Með þeim í för var eiginmaður Donnu, John, og sonur Sherri, Todd. Ferðin var skipulögð í þaula af gestgjöfunum enda ekki á hverjum degi sem nýja ameríska fjölskyldan kemur í heimsókn alla leið frá Atlanta. Sonur Árna, Jón Júlíus, starfar sem flugmaður og flaug hópnum til Íslands. Fyrst var farið með þau á heimaslóðir Árna í Njarðvík og þeim sýnt hverfið og Gamla Hlíð á Borgarveginum, húsið sem Árni bjó í fyrstu ár lífs síns. „Stórfjölskyldan kom svo saman, við Veiga og afkomendur okkar, og borðaði kvöldverð og fannst amerísku fjölskyldunni frábært hve mikið unga fólkið í fjölskyldunni gaf af sér og var ófeimið við að spjalla við þau. Þeim fannst ótrúlegt hversu vel Íslendingar kunna ensku,“ segir Árni. „Ég vildi óska þess að meiri áhersla væri lögð á að læra erlend tungumál í bandarískum grunnskólum,“ segir Sherri. Farið var í Stekkjarkot, Víkingaheima og um Reykjanesskagann og sagði Sherri sólsetrið á Garðskaga vera það stórkostlegasta sem hún hefði séð. Hópurinn skoðaði Bláa lónið og fékk sérstaka kynningu um lónið og sögu þess. Skoðaðir voru fossar á Suðurlandi, Sólheimajökull og Þingvellir og fannst þeim magnað að drekka hreint íslenskt vatn beint úr læk. „Við höfum heyrt að þið séuð öll svona falleg á Íslandi vegna þess að vatnið ykkar er svo hreint,“ sagði Donna. Eins höfðu þau orð á því hve fallega skörp skilin eru á milli græna mosans og svarta hraunsins í náttúrunni á Íslandi. „Það er rétt sem sagt er, að Ísland og Grænland hafi fengið röng nöfn. Náttúran á Íslandi er mun grænni en nafnið gefur til kynna,“ segir Donna og bætir við að loftið á Íslandi sé svo hreint og veðrið hafi verið svo fallegt. „Reykjavík er svo falleg og litrík með litlar sætar búðir og fallega höfn.

Það var æðislegt að labba um hafnarsvæðið og í kringum Hörpu,“ sagði Donna. Hópurinn gekk um miðbæ Reykjavíkur með leiðsögn sagnfræðingsins Marteins hjá Reykjavik City Walk sem fræddi þau um söguna. „Það er aðdáunarvert hve langt þið eruð komin í fæðingarorlofsmálum, menntun og málum eldri borgara,“ segir Donna. „Við fjölskyldan skiptumst á að fá hópinn í mat og svo var líka gaman að þau gátu verið viðstödd skírn barnabarns okkar, hans Tómasar Óla. Það fannst þeim æðislegt og höfðu orð á því hve gestrisnir Íslendingar eru og alltaf til í að opna heimili sín. Þau sögðu það ekki vera eins algengt í Bandaríkjunum,“ segir Árni. En hvað fannst þeim eftirminnilegast í heimsókn sinni á Íslandi? „Að hitta Árna bróður og fjölskylduna hans. Öll voru þau eins og Íslendingar koma okkur fyrir sjónir; hlý, indæl, vinaleg og með frábæran húmor. En auk þess fannst mér Gullfoss magnaður. Að mínu mati er hann stórkostlegri en Niagra Falls okkar Ameríkana,“ segir Donna. „Það var líka mjög skemmtileg upplifun að lenda á Keflavíkurflugvelli á flugbraut sem pabbi okkar átti líklega þátt í að byggja á árunum 1942 til 1943 og skoða gamla hervöllinn,“ bætti hún við. Hvernig bragðaðist íslenskur matur? „Mér fannst allt gott sem ég smakkaði!“ segir Todd, sonur Sherri. „Hákarl, hvalur, grafið folald og ekki síst Brennivín, það fannst mér mjög gott.“ Sherri og Donna voru ekki eins hrifnar af hákarlinum en þóttu íslenskir sjávarréttir þeir ferskustu sem þær höfðu smakkað. „Skyr er líka gott,“ sagði Donna og Sherri fannst íslenskt kaffi það besta í heimi og fékk heim með sér nokkra poka af kaffi frá Kaffitári. „Ég gæti haldið endalaust áfram um hve frábær Íslandsferðin okkar var,“ sagði Sherri að lokum og bætti Donna við að þau séu strax farin að hlakka til næstu heimsóknar. hildur@vf.is

fimmtudagur 27. október 2016

„Við höfum heyrt að þið séuð öll svona falleg á Íslandi vegna þess að vatnið ykkar er svo hreint.“


Traust forysta

Kjóstu með þínum hagsmunum Lækkum skatta á meðallaun • 25% neðra þrep með útsvari* • Persónuafsláttur útgreiðanlegur* *Byggt á tillögum verkefnisstjórnar Samráðsvettvangs um aukna hagsæld

www.framsokn.is

Þú finnur okkur líka hér:

/framsokn


16

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 27. október 2016

Súpa og stemning

■■Stemning var á kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar um helgina, gítarspil, söngur og súpa þegar flokkurinn undirbjó lokaviku kosningabaráttunnar.

Dunkin’ Donuts í Leifsstöð ■■Veitingastaðirnir Ginger og Dunkin’Donuts hafa verið opnaðir í Flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Rúmt ár er síðan fyrsti Dunkin’ Donuts staðurinn var opnaður hér á landi og eru staðirnir nú orðnir fimm talsins. „Það gleður okkur að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á fleiri kosti þegar þeir koma til landsins. Á Ginger má finna úrval heilsurétta og á Dunkin’ Donuts geta viðskiptavinir keypt sér gæðakaffi og kleinuhringi. Sterkur kaffibolli getur einmitt oft komið sér ansi vel eftir langt flug,“ segir Sigurður Karlsson, framkvæmdastjóri matvörusviðs Basko, en félagið á og rekur verslanir 10-11 og veitingastaði Dunkin’ Donuts á Íslandi.

ALÞINGISKOSNINGAR SVEITARFÉLAGINU VOGUM LAUGARDAGINN 29. OKTÓBER 2016 Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00 Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, Tjarnargötu 2, gengið inn frá leikvelli Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna alþingiskosninga liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu sveitarfélagsins fram að kjördegi. Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga


xA MEIRI BJARTA FRAMTÍÐ …minna fúsk Vilt þú almannahagsmuni fram yfir sérhagsmuni? Þá skaltu kjósa Bjarta framtíð.

…minni okurvexti Vilt þú hætta að borga húsnæðislánið þitt margfalt til baka? Þá skaltu kjósa Bjarta framtíð.

…minni spillingu Vilt þú heiðarlega og skynsama leiðtoga til forystu? Þá skaltu kjósa Bjarta framtíð.

…minni sóðaskap Vilt þú að Íslendingar hætti að gefa skít í umhverfið? Þá skaltu kjósa Bjarta framtíð.

…minni einsleitni Vilt þú fjölbreytt samfélag og manneskjulegar stofnanir? Þá skaltu kjósa Bjarta framtíð.

Páll Valur Björnsson

Óttarr Proppé

þingmaður

þingmaður


18

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 27. október 2016

SKOÐA

Hrekkjavöku-

hugmyndir

Á PINTEREST ●●Skreytingar, góðgæti, búningar og andlitsfarðanir

Njarðvík í nokkur ár með Hrekkjavakan er á næsta mikilli þátttöku og kátínu leiti, eða 31. október, og á meðal barnanna. Við vinekki seinna vænna að fara konurnar höfum verið að að huga að skreytingum fara til þeirra eða upp á og ógnvekjandi búningum. Ásbrú með börnin okkar til Undanfarin ár hefur þessi að taka þátt í þessari gleði. bandaríski siður notið En svo ákváðum við Svava vaxandi vinsælda á Íslandi og hafa nokkur hverfi á María Sigurðardóttir, og Þóra Kristín að hittast íbúi í Heiðarhverfog skipuleggja svona viðSuðurnesjum gert „grikk inu í Reykjanesbæ burð í Heiðarhverfinu. eða gott“ að árlegum sið. Eftir að við b j u g g u m Þá skreyta þeir sem vilja til viðburðinn taka þátt innganginn með logandi kertaljósum, oft í útskornum og settum hann á Fagraskerjum og öðru draugalegu cebook þá hefur mikil skrauti og börnin ganga í hús, bjóða umræða farið af stað grikk eða gott og fá sælgæti eða annars í kringum okkur. Til konar góðgæti. María Sigurðardóttir, mikillar ánægju þá er íbúi í Heiðarhverfinu í Reykjanesbæ, þáttakan svakalega segir þetta mikla fjölskylduskemmtun góð og tala margir um og vonar að sem flestir taki þátt og að skreyta heimilin sleppi sínu innra barni lausu í skreyt- sín, halda hrekkjavökupartý og klæða sig ingum og gleði. „Það hefur lengi blundað vilji hjá upp í tilefni dagsins. okkur vinkonunum að halda Hrekkja- Við vonum bara að vöku í hverfinu okkar en einhvern sem flestir taki þátt veginn varð ekkert úr því. Það var ekki og sleppi sínu innra fyrr en vinkona okkar, hún Svava Ósk, barni lausu í skreytflutti í hverfið til okkar úr Innri Njarð- ingum og gleði,“ vík að hugmyndin varð að veruleika. segir María. Þessi hátíð hefur verið haldin í Innri

Hvað finnst þínum börnum um Hrekkjavökuna? „Það er mikil gleði á heimilum okkar vinkvennanna. Það eru allir þátttakendur í gleðinni, ungir sem aldnir. Hér er legið á Pinterest að skoða skreytingar, góðgæti, búninga og farðanir. Þetta er mikil fjölskylduskemmtun. Enda var það tilgangurinn með þessum viðburði, að útbúa góða fjölskylduskemmtun,“ segir María að lokum.

ALÞINGISKOSNINGAR LAUGARDAGINN 29. OKTÓBER 2016 Kosið er í Grunnskólanum í Sandgerði. Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00. Á kjördag mun kjörstjórn hafa aðsetur í Grunnskólanum í Sandgerði og í síma 899-6317. Kjörstjórn Sandgerðisbæjar.

Senjórítur og Raggi Bjarna með tónleika

■■Senjórítukórinn mun halda haust tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju ásamt stórsöngvaranum Ragga Bjarna laugardaginn 29. október. Undir spila Birgir Bragason á bassa, Erik Róbert Qvick á trommur og Vilberg Viggósson á píanó.

Glæpasögur og góðir höfundar ■■Glæpasagnavika stendur nú yfir í Bókasafni Reykjanesbæjar. Glæpasögum verður gert hátt undir höfði þessa daga, glæpagetraun verður á safninu og verður safnið að einum allsherjar glæpavettvangi. Í kvöld, fimmtudagskvöldið 27. október, klukkan 20.00 koma glæpsamlega góðir gestir í heimsókn, það eru glæpasagnahöfundarnir Lilja og Yrsa Sigurðardætur sem koma og kynna sínar nýjustu glæpasögur. Þær fjalla um áhuga sinn á glæpasögum og hvernig þeirra glæpasögur verða til. Allir góðir gestir eru glæpsamlega velkomnir, segir í tilkynningu.


Heiða Guðný, 2. sæti

Ari Trausti, 1. sæti

Daníel, 3. sæti

Velkomin á kosningamiðstöð okkar að Hafnargötu 31, Keflavík Opið virka daga frá kl. 17-19 og kosningakaffi á kjördag frá kl. 12-20.

Hverjum treystir þú? Kynntu þér stefnumálin á vg.is og fylgstu með okkur á facebook/VgSudur


20

ALÞINGISKOSNINGAR

2016

Blekkingar kvótahafa Núverandi leiguverð á þorskkvóta er lægst 175 krónur á kílóið og hæst 230 krónur. Þegar auðlindagjaldið var í kringum 23,20 kr. á hvert þorskígildis kíló barmaði útgerðin sér svo yfir íþyngjandi Þórólfur álögum að í látunum hélt Júlían Dagsson þjóðin að sjávarútvegurinn Sjómaður og væri að fara á hausinn vegna frambjóðveiðigjalda. andi Pírata í Suðurkjör- Útgerðin leigir frá sér afladæmi skrifar heimildir á tíu sinnum hærra verði en hún telur sért fært að greiða íslensku þjóðinni. Eru þær útgerðir sem leigja kvótann í dag betur stæðar en almennt gerist? Hver er skýringin á þessum tvöföldu skilaboðum? Þetta ætti fólk að hafa í huga þegar rætt er um að veiðiheimildir fari á uppboð. Það er ekkert öryggi í núverandi kerfi, nema fyrir kvótahafana. Heilu byggðarlögin

hafa nánast lagst í eyði vegna tilfærslna á kvóta. Uppboð á veiðiheimildum þar sem ALLIR geta boðið í veiðiheimildirnar, tryggir öllum byggðarlögum jafnan aðgang að fiskimiðunum. Samhliða frjálsum handfæraveiðum tel ég þetta stærsta byggðamálið. Aðskilnaður fiskveiða og fiskvinnslu er tryggður með því að setja allan afla á markað. Þannig tryggjum við hráefnisöryggi fyrir öll fiskframleiðslufyrirtæki en í dag er öryggið aðeins til staðar fyrir vinnslur með eigin útgerð. Þjóðin á fiskveiðiauðlindina. Uppboð veiðiheimilda tryggir sanngjarna skiptingu arðs, nýliðun og jafnræði í greininni. Markmiðið er sátt milli þjóðar og útgerðar. Sátt um sjávarútveg. Sátt um kerfisbreytingar án kollsteypu.

Íslenska þjóðfylkingin stendur með sjómannafjölskyldum Jón Valur Jensson í flokksstjórn Íslensku þjóðfylkingarinnar skrifar.

Stefna okkar er „endurskoðun fiskveiðistjórnunar frá grunni og frelsi í sjávarútvegsmálum. Stóraukið frelsi í strandveiðum. Fiskveiðiauðlindin verði sameign þjóðarinnar skv. stjórnarskrá. Erlent eignarhald verði afnumið í sjávarútvegi.“ Stóraukið frelsi til smábátaveiða merkir hér í raun margföldun í veiði á bolfisk og kvótalausar makrílveiðar. Þá er okkar stefna 6% skattafsláttur af tekjum sjómanna. Sumir hafa talað gegn sjómannaafslætti sem „ mismunun“ sem ekki sé þörf á fyrir stétt sem hafi tiltölulega góðar tekjur. Þar á móti kemur, að nánast engin umræða er um að hátekjumenn í öðrum stéttum eru bæði með ofurbónusa og önnur fríðindi ofan á laun sín og setjast ekki til vinnu, þegar ráðnir eru, fyrr en þeir hafa tryggt sér milljónatuga-starfslokasamninga! Enginn þarf að öfunda sjómenn, þeir leggja mikið til samfélagsins, stór hluti launa þeirra er með hartnær 50% skattlagningu, án þess að þeir notfæri sér samfélagsþjónustu í sama mæli og aðrir. Þeir eru langtímum saman fjarri fjölskyldum sínum, vinna gjarnan 12 tíma eða lengur á dag, eru með styttri starfsævi en aðrir

og meiri slysatíðni. Áhætta þeirra og framlag til þjóðlífsins verðskuldar því viðurkenningu. Þar að auki er gróði af smáútgerð jákvæður kostur, ekki löstur. Hann smyr samfélög strandbyggðanna með aukinni veltu, útsvörum og öðrum gjöldum. Það er einungis jákvætt ef efnahagur sjómanna hjálpar þeim ekki aðeins að borga hratt niður skuldir á dýrum bátum sínum og tæknibúnaði, sem þar er þörf á og skylda til, heldur líka til að geta með tímanum hjálpað börnum sínum að kaupa sér sjálf bát til útgerðar. Þá verður líflegra að líta til athafnasvæðanna við hafnir landsins: dæmið snýst við, og aflaheimildir hætta að streyma þaðan til vellríkra fákeppnisútgerða, en haldast og aukast hjá fólkinu sjálfu, með lýðræðisvæðingu þessa gamla bjargræðisvegar fólksins, með veiðiaðferðum sem aldrei geta skemmt sjávarbotninn eða gengið á fiskistofna landsins. Þetta vill Þjóðfylkingin tryggja sjómannafjölskyldum og strandbyggðum á Suðurnesjum og hringinn í kringum landið. X-E fyrir Guðmund Karl Þorleifsson!

SJÓNVARP V Í K U R F R É T TA

NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ WWW.VF.IS/VEFTV

SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!

Í tilefni kosninga Kæru Reyknesingar, þar sem ég Guðmundur Karl Þorleifsson er að bjóða mig fram í fyrsta sæti fyrir Íslensku þjóðfylkinguna í þessu kjördæmi er auðvitað ekki úr vegi að ég kynni mig örlítið. Guðmundur Ég er innfæddur Keflvíkingur og Karl Þorleifs- hef lengstum starfað þar. Lærði son, rafvirkjun hjá föður mínum, rafmagnsÞorleifi Sigurþórssyni, á svæðinu iðnfræðingur þar til ég hóf nám í Tækniskóla skrifar Íslands. Þar lauk ég námi sem rafmagnsiðnfræðingur. Starfaði ég fyrst eftir nám sem rafmagnseftirlitsmaður fyrir rafveitur á Suðurnesjum. Þá hóf ég störf fyrir verkfræðideild ÍAV á Keflavíkurflugvelli, en síðar sem sjálfstæður verktaki. Lengi starfaði ég sem verktaki fyrir Keflavíkurbæ, síðar eftir sameiningu sveitafélaganna í Reykjanesbæ. Eru enn flest umferða- og gangbrautaljós í sveitafélaginu uppsett undir minni umsjón. Þá þjónustaði ég einnig Hitaveitu Suðurnesja á fyrstu árum hennar sem verktaki við ýmis verkefni, er þar helst að nefna línubyggingar og viðhald þeirra en í bernsku Hitaveitunnar brugðust gömlu línurnar oft við verstu verður. Í dag rek ég Rafspennu ehf. sem einna þekktust er fyrir innflutning á jólaljósum, bæði fyrir sveitarfélög og svo einstaklinga. Ég hef verið virkur í félagsstarfi á Suðurnesjum. Þar er helst að

nefna stofnun Björgunarsveitarinnar Stakks, sem var virkur félagsskapur sem lét mikið til sín taka á árum áður. Þá er ég virkur félagi í Skotfélagi Keflavíkur, og ekki síst í Stangaveiðifélagi Keflavíkur en þar hef ég verið félagsmaður frá stofnun. Ég hef látið þó nokkuð til mín taka í umhverfismálum og var það nýjasta í þeim efnum í sambandi við sinnuleysi opinberra aðila, vegna lækkunar jarðvatnsstöðu í Landbroti, sem orsakaði geigvænleg náttúruspjöll og eyðileggingu á náttúruverndarsvæði Grenlækjar. Þá hef ég einnig lagt mikla áherslu á að brugðist verði skjótt við uppbyggingu helstu áfangastaða ferðamanna, þannig að ummæli þeirra verði ekki neikvæð gagnvart landinu og við gætum lands okkar af skynsemi. Það er einnig mikilvægt að sett verði aukið fé til vegagerðar og þarf að keyra áfram af þunga að endanlega klára tvöföldun Reykjanesbrautar. Það mun ég gera, fái ég til þess brautargengi. Ég mun einnig berjast fyrir því að heilbrigðisþjónusta verði efld og færð í nærþjónustu þeirra sem hana þurfa að nota. Þeir sem búa í Suðurkjördæmi eiga að geta notið bestu þjónustu í nærumhverfi sem völ er á , hér þarf einungis nýja nálgun.

Ég mun beita mér fyrir hækkun skattleysismarka, þannig að gjaldendur fari ekki að greiða til opinberra aðila fyrr enn þeir hafi náð 300.000 króna launum. Þá mun ég beita mér af fullum þunga, fyrir gjaldfrjálsri grunnheilbrigðis þjónustu, sem og afnámi skerðingarinnar króna á móti krónu, hjá öldruðum og öryrkjum. Þessa breytingu er hægt að láta taka gildi strax. Þetta myndi koma öllum til góða, en ekki síst þeim sem litlar tekjur hafa, þar sem skerðingarhlutfall myndi hverfa. Þá geta þeir sem ekki ná þessu tekjumarkmiði bætt við sig tekjum, án þess að þeim sé hegnt fyrir að leggja sitt að mörkum og þar af leiðandi auka hagvöxt í landinu. Erum við í Íslensku þjóðfylkingunni eindregið með frjálsum strandveiðum, allir eiga að geta fengið tækifæri í þessu landi til rekstrar lítilla og meðalstórra fyrirtækja, sem meðvitað virðist mörg undanfarin ár hafa mætt litlum sem engum skilningi yfirvalda. Það er allra hagur að fólk fái að blómstra, þá blómstra byggðir landsins. Nú bið ég þig kjósandi góður, að veita mér liðsinni svo ég komist á löggjafaþing í komandi kosningum og þar með tryggja það að Suðurnesjamaður tali fyrir ykkur. Það gerir þú með því að setja X við E

Ætla Píratar að skattpína ferðaþjónustuna? Vilja þeir brenna kolum í stað umhverfisskárri orkukosta? Píratar hafa sett fram metnaðarfull markmið í loftslagsmálum sem á margan átt má taka undir. Þó eru á þeim vanhugsaðir og óraunhæfir agnúar. Píratar vilja nýta hagræna hvata til að draga úr útstreymi mengunar í umhverfið. Skúli Thoroddssen Þannig skal öll starfsemi sem Íbúi í Reykja- losar mengandi efni í umhverfið nesbæ og greiða mengunarrentu umfram skipar 12. hefðbundna skatta. Ferðamannasæti á lista flaumurinn til Íslands næstu árin Viðreisnar í mun skilja eftir sig mestu og Suðurkjördæmi skrifar. subbulegustu kolvetnissporin hér á landi. Menga mjög. Ætla Píratar þá að draga úr þeim flaumi með skattlagningu á ferðaþjónustuna, til að stemma stigu við loftslagsbreytingum, með stuðningi VG og Samfylkingarinnar komist þeir í næstu ríkisstjórn með þeim flokkum? Maður bara spyr sig. Píratar vilja að Ísland taki skýra afstöðu gegn frekari olíuleit og olíuvinnslu í efnahagslögsögunni, meðan VG og Samfylkingin vilja afturkalla gildandi olíuleitarog eftir atvikum vinnsluleyfi á Drekasvæðinu sem þau stóðu þó að í síðustu ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms J. Píratar virðast þannig vilja halda samninga, sem VG og Samfylkingin ætlar ekki að gera, en Píratar vilja ekki,

frekar en VG og S, stofna til nýrra leyfa komi í ljós vinnanlegar gaseða olíulindir á Drekasvæðinu. Samkvæmt auðlindastefnu Pírata kemur fram að þeir vilji að íslenska þjóðin fái sanngjarnan arð af nýtingu sameiginlegra auðlinda sinna en samt taka þeir skýra afstöðu gegn frekari olíuleit og þar með að íslenska þjóðin fái arð af þeirri auðlind sinni sé hún á annað borð vinnanleg. Því ræður aðgerðastefna Pírata í loftslagsmálum m.a. um að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar Íslands og að axla ábyrgð á málaflokknum. En er það svo? Framlag okkar Íslendinga til að stemma stigu við loftslagsbreytingum er, auk okkar eigin markmiða vegna Parísarsamningsins, að nýta sem best okkar sjálfbæru virkjunarkosti. Evrópa, sem á fárra sjálfbærra kosta völ, gæti líklega uppfyllt Parísarsáttmálann með því að skipta út kolum fyrir gas með því að auka kaup á gasi frá Rússlandi og úr Norðursjó. Um helmingur raforku í Þýskalandi í dag kemur frá brennslu kola og kolvetnissporin því yfirþyrmandi í Þýskalandi. Um 30% af orkuvinnslu heimsins alls stafar frá kolum.

Það skyldi þó aldrei vera að olía/gas á Drekasvæðinu gæti hjálpað til við að losna við kolin til að stemma stigu við loftslagsbreytingum á síðari helmingi 21. aldarinnar? Eigum við þá að vera á móti frekari olíuleit og olíuvinnslu í efnahagslögsögunni í anda náttúruverndar? Gott væri að Píratar hugsuðu málið heildstætt, meðal annars í hnattrænu samhengi út frá orkuþörf heimsins alls. Andstætt stefnu Pírata er stefna Viðreisnar alveg skýr að maður tali nú ekki um stefnu Vinstri grænna eða Samfylkingarinnar. Viðreisn vill leita raunhæfra lausna í samhengi við þann raunveruleka sem við búum við. Leggja okkar af mörkum í þágu vistvænna orkugjafa, nýta sjálfbæra orkukosti og auðlindir landsins, í sátt við náttúruna. Það verður að skipta út vondum orkukostum fyrir betri eða skárri kosti, gas fyrir kol eða þess vegna olíu fyrir kol, ef það hjálpar til við að bregðast við loftslagsvandanum, vegna þess að það er skynsamlegt, einkum til skemmri tíma litið meðan sjálfbærir, vistvænir orkukostir eru enn af skornum skammti.

Með hjartað á réttum stað og heilann í lagi! Oddný G. Harðardóttir er klár kona og við vitum fyrir hvað hún stendur. Vinnusemi, ósérhlífni, hnitmiðaðar lausnir, tekur ábyrgð og er traust, allt eru þetta góðir Jónína Holm eiginleikar og afbragðs kvenkostir bæjarfulltrúi N listans Garði.

í stjórnmálum og þess vegna er hún okkur öllum dýrmæt. Samfylkingunni er einum flokka treystandi til að koma á réttlæti, velferð handa öllum og að til að koma almannaþjónustu í lag, heilbrigðiskerfinu, málefnum

fjölskyldna og húsnæðismálum og auka jöfnuð í samfélaginu. Oddný er með hjartað á réttum stað og heilann í lagi, nýtum okkur það og kjósum Oddnýju og ekkert hik, áfram nú!


Skoda Superb 4x4 Árgerð 2015, dísil Ekinn 38.000 km, sjálfsk.

Ásett verð 5.140.000,Tilboðsverð

4.890.000,-

ÚRVALS

HEKLUBÍLAR í REYKJANESBÆ

Komdu til okkar á Njarðarbraut 13 og prófaðu einn af gæðingunum í notuðum bílum. Sölumenn taka vel á móti þér!

Audi A4 Avant

Árgerð 2013, dísil Ekinn 50.000 km, sjálfsk. Ásett verð:

4.590.000,-

Toyota Yaris Hybrid Árgerð 2012, bensín/rafmagn Ekinn 58.000 km, sjálfsk. Ásett verð:

2.240.000,-

MMC Outlander Árgerð 2015, dísil, 4x4 Ekinn 30.000 km, sjálfsk. Ásett verð:

5.390.000,-

Honda CR-V

Árgerð 2013, bensín Ekinn 38.000 km, sjálfsk. Ásett verð:

4.790.000,-

VW Golf Highline Árgerð 2013, bensín Ekinn 53.000 km, sjálfsk. Ásett verð:

2.920.000,-

MMC Lancer

Árgerð 2009, bensín Ekinn 126.000 km, sjálfsk. Ásett verð:

1.490.000,-

Njarðarbraut 13 Reykjanesbæ Símar 590 5091 og 590 5092 www.heklarnb.is

MMC Pajero Instyle Árgerð 2015, dísil, 4x4 Ekinn 34.000 km, sjálfsk. Ásett verð:

8.490.000,-

Skoda Yeti

Árgerð 2012, dísil Ekinn 109.000 km, beinsk. Ásett verð 2.890.000,Tilboðsverð:

2.670.000,-

Kia Rio

Árgerð 2012, dísel Ekinn 97.000 km, beinsk. Ásett verð:

1.890.000,-

Skoda Fabia

Árgerð 2015, bensín Ekinn 10.000 km, sjálfsk. Ásett verð 2.890.000,Tilboðsverð:

2.490.000,-

Chevrolet Captiva Árgerð 2014, dísil, 4x4 Ekinn 177.000 km, sjálfsk. Ásett verð:

3.290.000,-

Peugeot 308

Árgerð 2014, bensín Ekinn 29.000 km, beinsk. Ásett verð:

2.350.000,-


22

ALÞINGISKOSNINGAR

2016

Börnin okkar

Jákvæðni og staðfesta

Ég hef setið á Alþingi þetta kjörtímabil sem fulltrúi ykkar, kjósenda í Suðurkjördæmi. Það hefur verið mikil reynsla, oft erfið, en alltaf áhugaverð og lang oftast ánægjuleg. Pá l l Va l u r Árið 2014 hlotnaðist mér sá heiður og ábyrgð að vera útBjörnsson Varaþingnefndur sem einn af sérstökum flokksfor talsmönnum barna á Alþingi af maður og hagsmunafélögum sem starfa í þingmaður þágu barna. Ég tók þetta hlutverk Bjartrar strax mjög alvarlega og hef styrkst framtíðar í sannfæringu minni fyrir mikilskrifar vægi þessa verkefnis. Ég hef kynnt mér vel stöðu barna á Íslandi og sett mig inn í mál sem varða þau sérstaklega og hef séð svo margt aðfinnsluvert sem verður að bæta. Því miður er það ömurleg staðreynd að stór hópur barna hér á landi býr ekki við sömu tækifæri og önnur börn. Sum þeirra verða undir strax í leikskóla og grunnskóla, vegna félagslegra aðstæðna, fátæktar, fötlunar og skerðinga og fá ekki þann stuðning sem við getum sem samfélag svo vel veitt þeim. Að verða undir hefur gríðarleg áhrif á lífsgæði þessara barna og tækifæri í öllu lífinu og vegur að hamingju foreldra þeirra og annarra aðstandenda. Það er þyngra en tárum taki, er algjörlega óásættanlegt og óþarft í velmegunarsamfélagi okkar.

Ég heiti Heiða Rós Hauksdóttir og er 36 ára húsmóðir. Ég er í 2. sæti í Flokki fólksins í Suðurkjördæmi. Það sem heillar mig mest er jákvæðni og staðfesta flokksins um að gera landið betra og þarf því að stokka Heiða Rós Hauksdóttir, spilin vel. 2. sæti í Til dæmis í sambandi við að Flokki fólks- börnum verði tryggð í lögum ins í Suðursú vernd og umönnun sem kjördæmi velferð þeirra krefst. Flokkur skrifar fólksins vill að öllum börnum verði tryggður gjaldfrjáls og hollur matur í leikskólum og skólum. Ekkert barn á að þurfa að vera svangt vegna fátæktar. Öryrkjum, eldri borgurum og verkafólki verði tryggð mannsæmandi laun svo þau geti lifað með reisn. Afnema skattlagningu á fátækt. Grunnframfærsla verði ekki lægri en 300.000 krónur. Að sjálfstæði Íslands sé virt og réttur kjósenda til að fá fram þjóðarat-

Skólakerfið gegnir lykilhlutverki við að tryggja börnum tækifæri til að þroska sig og gera þeim kleift að njóta lífsins á sínum forsendum. Skólinn á að vera án aðgreiningar og mismununar. Hann á að laga sig að einstaklingnum, þörfum hans og hæfileikum. Börn eiga ekki að þurfa að laga sig að skólanum. Ég veit, af eigin reynslu, að skólastjórnendur, kennarar og annað starfsfólk skólanna vilja sinna þeim vel. Þetta góða fólk þarf hins vegar að fá fleiri og margbreytilegri úrræði og stuðning til þess að geta sinnt öllum börnum, þörfum þeirra og forsendum. Sem talsmaður barna á Alþingi hef ég skrifað margar greinar, flutt margar ræður og lagt fram fyrirspurnir sem lúta að málefnum barna. Í september síðastliðnum

hlotnaðist mér sá heiður að vera verðlaunaður fyrir að standa mig best þingmanna í að vekja athygli á og berjast fyrir réttindum barna, ekki síst þeirra sem eru í erfiðri stöðu. Þessi viðurkenning er mér meira virði en nokkuð annað sem mér hefur hlotnast á lífsleiðinni. Hún er mér líka mikil hvatning til að halda áfram að vinna í þágu barna. Ég veit hins vegar að staða þingmanns færir mér bestu tækifærin til að berjast fyrir þessu mikilvæga málefni. Að bæta stöðu og réttindi barna og jafna tækifæri þeirra til að njóta lífsins og vera virkir og hamingjusamir þátttakendur í samfélaginu. Þess vegna bið ég þig ágæti kjósandi að veita mér stuðning til að halda áfram á sömu braut.

Í Suðurkjördæmi eru verkefnin mörg og áríðandi en forgangsverkefnið má orða á einfaldan hátt: Hætta að vanrækja innviðina og byrja að byggja þá upp; gera við það sem aflagað hefur verið. Heilbrigðisstofnanir eru fjársveltar og útgjöld til menntunnar, allt frá grunnskólastarfi til framhalds- og háskólastigs í lágmarki, fé vantar til löggæslu, auk þess sem brýnar framkvæmdir í samgöngumálum og nettengingum hafa fengið að sitja á hakanum. Viðhaldi vega er ákaflega ábótavant. Þrátt fyrir stóraukið álag og hraða fjölgun ferðamanna á Suðurland hafa nær allir samfélagsinnviðir og grunnþættir ferðaþjónustunnar setið eftir. Íbúar eru flestir áhyggjufullir með réttu, fullsaddir af vangetu ríkisstjórnarinnar til að færa fjármagn úr vasa þeirra sem eru meira en aflögufærir til þeirra sem þurfa að bæta hag sinn eftir að hafa borið misþungar hrunbyrðar inn í vaxandi góðæri. Reyndum þingmönnum VG og ferskum, áhugasömum nýliðum er treystandi til sóknar með skýrum áherslum á að tryggja velferð og tækifæri fyrir alla, óháð búsetu. Eigum við ekki að sameinast um leiðir til að fjármagna öflugari nýsköpun, endurbætta heilbrigðisþjónustu og betri almenningssamgöngur? Viljum við ekki endurreisa Garðyrkjuskólann og heimavistir framhaldsskóla, tryggja fleiri stöður í fjarvinnslu, tryggja réttindi byggða í fiskveiðum og auka hlut sveitarfélaga í tekjum

af ferðamönnum? Listinn er enn lengri og tími til kominn að vinna að lausnum. Stærsta baráttumálið á landsvísu er endurreisn heilbrigðiskerfisins eftir fjársvelti í 25 ár. Um langt skeið hefur markvisst verið grafið undan samfélagslegri heilbrigðisþjónustu og gjaldtaka og einkarekstur verið aukin. Við munum snúa öfugþróuninni við og endurreisa heilbrigðiskerfið í skrefum með stórauknum framlögum og skýrri forgangsröðun. Við munum lækka greiðslubyrði sjúklinga og eyða óvissunni um nýjan Landspítala. En hver á að borga? Þarf ekki að hækka skatta á almenning og flest fyrirtæki til að standa undir stefnunni? Nei, svörum við. VG mun ekki hækka skatta á almenning, heldur hefjast handa við að taka á skattaskjólum og skattaundanskotum, tryggja að alþjóðleg stórfyrirtæki borgi skatta á Íslandi eins og önnur fyrirtæki og sjá til þess að þeir sem nýta auðlindir þjóðarinnar greiði eðlilegt gjald. Við þurfum nýja ríkisstjórn sem hverfur af braut þeirrar hörðu hægristefnu sem fráfarandi ríkisstjórn hefur rekið í meginatriðum; ríkisstjórn sem nýtti ekki sóknarfærin rétt og hefur ekki notað hluta af mikilli auðlegð stórs hóps til að endurbyggja samfélagið og efla grunnstoðirnar. Við leggjum áherslu á að tækifærið framundan verði nýtt til að hlú að því sem við eigum saman, þeim verðmætum sem felast í velferð og menntun.

Nú er lag Kosningarnar framundan fela í sér tækifæri til að breyta stefnum og áherslum í samfélaginu, bæta hag þorra fólks og sækja fram í umhverfismálum. Við í VG göngum bjartsýn til kosninga enda bjóðum við fram framtíðarAri Trausti Guðmunds- sýn sem byggir á jöfnuði, réttlæti son, oddviti og umhverfisvernd. VG í Suður- Listi VG í Suðurkjördæmi kjördæmi spannar margvíslega þekkingu og skrifar reynslu, breitt aldursbil, endurspeglar dreifða búsetu og rætur og kynjaskiptingu samkvæmt stefnu hreyfingarinnar í jafnréttismálum. Í öðru sæti er ungur, hugumstór bóndi, Heiða Guðný, úr nábýli við Kötlu gömlu, í því þriðja syngjandi háskólanemi, Katrín Jakobsdóttir, Daníel Arnarsson úr Þorláksformaður VG höfn, þá innanhúsarkitektinn skrifar Dagný Alda í Reykjanesbæ með reynslu á víðu sviði eftir búsetu erlendis og sterka tengingu við ólíka menningarstrauma, og í fimmta sæti Vestmanneyingurinn Helga sem hefur trausta þekkingu og reynslu úr velferðargeiranum. Ég hef sem jarðvísindamaður stundað fræðslu og ráðgjöf, ferðast víða og stundað ritstörf og útvarps- og sjónvarpsvinnu í áratugi. Við vitum að það kostar fyrirhöfn að afla trausts ykkar á þessum hópi. Við leitum bjartsýn eftir því með því að hitta sem flesta, skrifa og tala skýrt og heiðarlega, og standa fast á því sem felst í fyrirheitum um frelsi, jafnrétti, jöfnuð, samstöðu, mannúð og sjálfbærni.

VF.IS Í NÝJUM FÖTUM

TÖLVUNNI

FYLGSTU MEÐ Í...

SNJALLSÍMANUM

SPJALDTÖLVUNNI

kvæðagreiðslu um deilumál sé einnig virtur. Að unga fólkinu sé tryggður grundvöllur til heimilisstofnunar og að námslán fái leiðréttingu í samræði við aðrar skuldaleiðréttingar. Viljum við afnema verðtryggingu og keyra niður okurvexti þannig að þeir verði ekki hærri en best þekkist í löndum í kringum okkur og gerir það þá ungu fólki kleift að eignast sitt eigið húsnæði og hafa þá líka efni á að fæða og klæða börnin sín og geta leyft börnum sínum að stunda íþróttir og aðrar tómstundir. Og vonandi minnkar þá fólksflutningur úr landi svo um munar. Fiskveiðistjórnarkerfið verði endurskoðað og það tryggt að fullt verð fáist fyrir aðgang að auðlindinni. Þá vona ég að þið kjósið okkur svo við getum breytt sem mestu til batnaðar.

Jákvæðni og staðfesta Það er alveg sama hvar borið er niður í dag og hvaða alþjóðlegu mælikvarðar eru skoðaðir - Ísland skorar alltaf hæst: ríkissjóði hefur verið snúið úr gegndarlausum hallarekstri í afgang; atvinnuleysi er nú bara Páll Magnússon tölfræðilegt, rúmlega 2%, sem Oddviti Sjálf- þýðir á mannamáli að það er stæðisflokks- ekkert atvinnuleysi; hagvöxtur ins í Suðurá Íslandi hefur verið meiri að kjördæmi undanförnu en í öllum þeim skrifar. löndum sem við notum til samanburðar - og kaupmáttur launa hefur aukist meira síðustu misserin en dæmi eru um á svo skömmum tíma um langt skeið. Þessi upptalning gæti haldið áfram lengi enn - og er einn samfelldur vitnisburður um hversu vel hefur tekist með stjórn efnahagsmála á því kjörtímabili sem er að ljúka. En við vitum líka að það þarf að gera betur á ýmsum sviðum. Hér á okkar slóðum - í Suðurkjördæmi - eru það innviðabrestirnir sem eru mest aðkallandi. Þeir eru samstofna um allt kjördæmið - vestan frá Reykjanesi og austur á Höfn - og á öllu þessu svæði nefna menn fyrst tvennt: samgöngumál og heilbrigðisþjónustu. Þar á eftir kemur svo löggæslan. Sumir þessir brestir eiga sér rætur í groddalegum niðurskurði í kjölfar hrunsins, aðrir eiga sér lengri sögu en allir verða þeir augljósari núna þegar fjöldi erlendra ferðamanna í kjördæminu hefur margfaldast á aðeins nokkrum árum. Forgangsmálin eru mismunandi eftir svæðum og stöðum í kjördæminu en öll af sömu rótum runnin. Þessa bresti munum við þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja höfuðáherslu á að laga á næsta kjörtímabili. Forsendan fyrir því að það sé hægt, er að áfram haldi sú jákvæða þróun í efnahagsmálum og meðfylgjandi stöðugleiki sem ég gat um hér í byrjun. En einmitt þar liggur hundurinn grafinn. Það er alls ekki víst að svo verði - og raunar fremur ólíklegt miðað við hina pólitísku stöðu í dag. Það má segja að það hafi verið heiðarlegt hjá vinstri flokkunum undir for-

Auglýsingasíminn er

ystu Pírata að hefja stjórnarmyndunarviðræður um síðustu helgi - sex dögum FYRIR kosningar. Það hefði að vísu verið lýðræðislegra að hinkra eftir kosningaúrslitunum en látum það vera. Þetta útspil Pírata og viðbrögð hinna vinstri flokkanna við því hafa einfaldað og auðveldað val kjósenda á laugardaginn. Það eru bara tveir kostir í boði: fjögurra eða jafnvel fimm flokka vinstri stjórn undir forystu Pírata - eða ríkisstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Við vitum hvað Sjálfstæðisflokkurinn stendur f yrir ; hluta af því nefndi ég í byrjun þessarrar greinar. En sem betur fer vitum við líka hvað vinstri flokkarnir, sem hittust um helgina, standa fyrir. Þeir stjórna nefnilega allir saman einu verst rekna sveitarfélagi á Íslandi: Reykjavík. Á nýjum lista yfir 20 best reknu sveitarfélög á Íslandi tróna tvö á toppnum: Vestmannaeyjar og Grindavík. Tvennt af því sem þau eiga sameiginlegt er að þau eru bæði í Suðurkjördæmi og í báðum eru Sjálfstæðismenn við völd. Reykjavík kemst ekki einu sinni inn á þennan topp 20 lista. Tilviljun? Ég held ekki! Og við vitum meira. Við vitum að ef við leggjum saman megináherslur þessarra flokka ganga aftur allir gömlu draugarnir frá Jóhönnu og Steingrími J.: skattahækkanir á einstaklinga og atvinnulíf; Evrópusambandið; niðurbrot á fiskveiðistjórnunarkerfinu og óvissuferð inn í uppboðsleiðina; niðurrif á stjórnarskránni sem ekkert hefur gert af sér - og svona mætti áfram telja. Á laugardaginn er sem sagt hægt að velja á milli áframhaldandi framfara og efnahagslegs stöðugleika undir forystu Sjálfstæðisflokksins - eða fjölflokka vinstri óvissuferðar undir forystu Pírata. Ég treysti á dómgreind kjósenda í Suðurkjördæmi. Ég treysti á að þeir kjósi með sjálfum sér - fyrir eigin velferð og öryggi. Ég treysti á að þeir hafni þessu vinstra kraðaki; sporin hræða. Ég treysti því að þeir kjósi Sjálfstæðisflokkinn!

421 0001


24

ALÞINGISKOSNINGAR

2016

Krónan er eins og korktappi

Víg, virðing, von og Viðreisn

Stöðugleiki skilar tugþúsunda kjarabót fyrir almenning

Ingunn Guðmundsdóttir viðskiptafræðingur, skipar þriðja sæti fyrir Viðreisn í Suðurkjördæmi skrifar.

Einhver líkti krónunni okkar einhverju sinni við korktappa í ólgusjó fjármálaumhverfisins og stóru gjaldmiðlunum við stórskip með siglingarhæfni til að mæta mismunandi veðrum. Á Íslandi upplifum við núna ágæta tíma með þokkalegum kaupmætti og lágri verðbólgu. En ef við lítum út fyrir túnfótinn sjáum við að krónan hefur risið óþægilega mikið gagnvart erlendum gjaldmiðlum og það veldur útflutnings atvinnugreinunum vanda eins og staðfest var í fréttum fyrir nokkrum dögum. Framkvæmdastjóri hátæknifyrirtækisins Nox Medical lýsti því að fyrirtækið glímdi við 20% verðbólgu vegna stöðu krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Keppinautar fyrirtækisins í öðrum löndum búa við allt annað og betra rekstrarumhverfi. Ísland er ekki samkeppnishæft vegna þess hvað krónan sveiflast.

Lækkum greiðslubyrði um tugi þúsunda

Sveiflurnar tengjast líka fjármálum einstaklinga og birtast í vaxtaokrinu. Verðtryggingin er séríslenskt fyrirbæri. Samanburður við önnur lönd verður að miðast við óverðtryggð lán. Fyrir skömmu skrifaði ungur Íslendingur grein um breytta stöðu sína

Jóhannes A. Kristbjörnsson, 2. sæti á lista Viðreisnar

Myndin sýnir hvernig vaxtakjör húsnæðislána eru í nokkrum löndum.

eftir að hafa flutt til Svíþjóðar. Húsnæðislánið sitt fékk hann í venjulegum banka á 2% vöxtum án verðtryggingar. Sá sem tekur óverðtryggt lán á Íslandi greiðir næstum fjórfalda þá vexti. Ég tek dæmi af íslenskum banka sem býður óverðtryggt húsnæðislán með 7,3% vöxtum. Sá sem tæki 20 milljóna lán á þeim kjörum til 25 ára með jöfnum mánaðargreiðslum væri að greiða 145 þúsund krónur á mánuði. Á sama tíma væri skuldarinn í Svíþjóð að greiða 85 þúsund. Munurinn er 60 þúsund! Miðað við lægra skattþrep á Íslandi þyrfti launatekjur upp á 90 þúsund til að fjár-

magna þennan mun. Þetta er eitthvað sem alla munar um.

Myntráð virkar

Viðreisn vill festa krónuna við annan gjaldmiðil til að hún hætti að sveiflast eins og korktappi. Það fyrirkomulag byggir á tillögu Seðlabankans um Myntráð sem hann telur að virki til að ná stöðugleika og í beinu framhaldi lægri vöxtum. Núverandi stjórnarflokkar hafa ekki sýnt áhuga á að fara þessa leið og bæta kjör almennings og fyrirtækja í landinu. Það hlýtur því að vera öllum fyrir bestu að þeir fái frí. Viðreisn er X-C.

Viljum við stöðnun eða viljum við breytingu? Á hverjum einasta degi stöndum við frammi fyrir vali og ákvörðunum sem uppfylla ekki alltaf öll okkar viðmið. Við verðum að gera málamiðlanir og hlusta á rök með eða á móti svo við getum skapað sátt og náð fram skynsamlegustu niðurstöðunni fyrir flesta. Slíkar niðurstöður verða oftast bestar og leiða til framþróunar og breytinga. Undanfarin ár hafa verið lærdómsrík fyrir okkur sem þjóð. Við höfum haft vinstri stjórn, og í kjölfarið hreina hægri stjórn. Hvorugri uppstillingunni hefur tekist að ná því fram sem við mörg höfðum óskað eftir. Sátt í samfélaginu um stóru málin sem við teljum svo mikilvæg fyrir land Arnar Páll Guðmunds- og þjóð. Það er í þessu andrými sem stjórnmálasamtökin Viðson, Guðbjörg Ingireisn verða til. Umburðarlyndur mundarog frjálslyndur flokkur, sem vill dóttir og Þórtaka upplýsta afstöðu til mála unn Beneá grunni almenningshagsmuna, diktsdóttir frekar en sérhagsmuna. Viðreisn frambjóðendur á lista hefur í stefnuskrá sinni sett fram Viðreisnar í sýn sína og tillögur til lausnar Suðurkjörá þeim málum sem flokkurinn dæmi skrifa telur mikilvægt að sátt náist um. Hér er ekki verið að tala um byltingu í viðkomandi málaflokkum heldur breytingar sem miða að sanngjarnri, upplýstri niðurstöðu öllum til heilla.

Fastgengisstefna (myntráð) og lægri vextir

Öll þekkjum við umræðuna um íslensku krónuna, verðbólguna og verðtrygginguna. Afborganir, vextir og verðbætur. Krónan hefur reynst launafólki erfið og óstöðug, en alltaf er hægt að treysta á að afborganir af lánum hækki. Viðreisn vill stöðugleika, ekki í stuttan tíma í einu heldur til framtíðar. Þess vegna hefur Viðreisn sett á oddinn tillögu sína um fastgengisstefnu þar sem íslenska krónan er tengd við annað hvort körfu gjaldmiðla eða einstaka mynt. Næðu menn saman um slíka breytingu gerðist þrennt; Vextir myndu lækka, verðtrygging yrði óþörf, og hvert heimili fengi kærkomna kjarabót í formi tugþúsunda króna til eigin nota.

Sanngjarnt auðlindagjald

Í áratugi hefur verið deilt um réttláta skiptingu arðsins af sameiginlegum auðlindum okkar og hvernig það yrði best gert án þess að tefla í hættu því góða starfi sem gert hefur íslenskan sjávarútveg svo samkeppnishæfan sem orðið er. Viðreisn hefur lagt til útfærða uppboðsleið, þar sem lagt er til að ákveðið magn, 3-8% kvótans, verði boðið upp ár hvert.

VF.IS Í NÝJUM FÖTUM

Þannig myndi markaðurinn í raun ákveða afgjaldið í takt við afkomu greinarinnar hverju sinni og almenningur fá rétt gjald fyrir auðlindina sína.

Viðreisn þýðir breyting til bóta fyrir almenning

Þetta eru nokkur þeirra mála sem eru orsök þess að við undirrituð með mismunandi bakgrunn og áherslur að öðru leyti, höfum gengið til liðs við Viðreisn. Mismunandi bakgrunnur, reynsla og áherslur hafa kennt okkur að velferð þeirra sem í kringum okkur eru snýst ekki um hvort lífið sé svart eða hvítt, hægri eða vinstri. Velferð okkar allra hlýtur að snúast um að þær ákvarðanir sem við tökum séu upplýstar og til þess fallnar að sátt verði um. Breytingar til góðs. Þannig viljum við vinna og þess vegna erum við hluti þeirra fjölmörgu sem gengið hafa til liðs við Viðreisn og bjóðum okkur fram undir þeirra merkjum. Við vonum að þú kjósandi góður sért sama sinnis og tilbúinn að kjósa okkur og treysta til að koma á þeim breytingum sem við teljum svo nauðsynlegar í þágu almennings. Kjósum X-C fyrir fólk eins og mig og þig!

FYLGSTU MEÐ Í... TÖLVUNNI

SNJALLSÍMANUM

SPJALDTÖLVUNNI

Á laugardag kjósa Íslendingar þá stjórnmálaflokka sem þeir telja líklegasta til að geta leitt þjóðina; efnahagslega, félagslega og siðferðislega. Ég er þátttakandi í kosningabaráttunni og eru það fyrstu raunverulegu afskipti mín af pólitísku starfi. Mikill fjöldi framboða er merki um óánægju með þá flokka sem lengst hafa farið með völd í landinu. Óánægju með frammistöðu þeirra, gildismat og hegðun fulltrúa þeirra. Skoðanakannanir sýna að kjósendur eru bæði dreifðir á mörg framboð og hátt hlutfall þeirra eru óákveðnir. Fulltrúar allra flokka hafa í fjölmiðlum kynnt stefnu þeirra. Nokkuð ber á að frambjóðendum reynist erfitt að halda aftur af loforðaflaumnum enda veruleg þörf fyrir úrbætur á fjölmörgum sviðum. Þessa síðustu daga hafa bæði f rambjóðendur og ákaf ir stuðningsmenn nokkurra stjórnmálaflokka boðið upp á þann leik í hefðbundnum fjölmiðlum, í netfjölmiðlum og á samfélagsmiðlum að bera fram hræðsluáróður. Hann felst í því að gera lítið úr getu einstakra frambjóðenda, kasta fram mýtum um eðli stjórnmálaflokka, jafnvel gera nöfn og

útlit sumra frambjóðenda að aðhlátursefni. Með þessu haga flokkarnir og stuðningsmenn þeirra sér eins og bullurnar á skólalóðum fortíðarinnar. Í leik þessum gleymist að Alþingi nýtur mjög lítillar virðingar hjá almenningi einmitt vegna þess hve barnalega barist er á banaspjótum í ræðustól þingsins. Telji vonbiðlar þingsæta, bakhjarlar og stuðningsmenn þeirra að hræðsluvíg kosningabaráttunnar vinni þá virðingu aftur, sem Alþingi er nauðsynleg, skjátlast þeim hrapallega. Kjósendur eru hvorki auðblekkt hjörð né auðveldlega hræddir til hlýðni. Í mínum augum snúast Alþingiskosningarnar 2016 um framtíðina, að skilja þá eftir í fortíðinni sem ýmist ekki sjá þörfina fyrir breytingar á mörgum grunnþáttum samfélagsins eða hafa hagsmuni af óbreyttu ástandi. Ég hvet kjósendur til að nýta sér kosningarétt sinn og veita þeim framboðum sem boða breytingar atkvæði sitt. Kjósa þá sem trúverðugir eru um þá grundvallarhugsun að láta almannahagsmuni framtíðar ganga framar sérhagsmunapólitík fortíðar.

Að búa sér hreiður! Hú s n æ ð i s m a r k a ð u r i n n í Suðurkjördæmi er eins og víðast annars staðar hræðilegur. Fasteignafélög hafa sprottið upp og í eign fjárfesta sem líkast til áttu þátt í bankahruninu Ragnhildur sem varð hér um árið. Þessir sömu aðilar virðast geta keypt L. Guðmundsdóttir upp endalausar eignir af íbú2. sæti ðalánasjóði eða bönkum sem Dögun í hafa leyst til sín eignirnar fyrir Suðurkjördæmi skrifar. slikk. Þessi leigufélög hækka svo stórum leiguverðið og halda verðinu uppi á meðan bankarnir t.d. vilja ekki leigja sitt húsnæði og þannig halda þeir við skorti á markaðinum sem veldur síhækkandi leiguverði sem almenningur hefur ekki ráð á að greiða ef yfirhöfuð eitthvað húsnæði er laust. Hvað gera stjórnvöld? Ekkert. Þeir koma fram með loforð um eitthvað sem á að gerast einhvern tímann, gerist á einhverjum árum og á meðan er fólk húsnæðislaust. Börn verða að flytja búferlum oft á skólagöngu sinni, þurfa að fara í nýja skóla, kynnast nýju fólki og eignast nýja vini. Allar þessar breytingar á högum barna valda þeim kvíða og öðrum erfiðleikum og heilbrigðisþjónusta eins og geðlæknaþjónusta eða sálfræðiþjónusta tekur marga mánuði, biðlistar langir. Sveitarfélögum ber skylda til, samkvæmt lögum, að sjá fólki, sem hefur lágar tekjur eða lífeyri sem dugir ekki fyrir almennu húsnæði, fyrir félagslegu húsnæði. Sveitarfélögin brjóta þessi lög daglega, útvega ekki því fólki sem þarf slíkt húsnæði, losnar ekki nema að fólk andist og losar þannig húsnæði. Hvað þarf til að sveitarfélög standi við lögbundnar skyldur sínar? Fólk ætti að geta lögsótt sveitarfélögin fyrir að standa ekki sína plikt. Á Suðurnesjum hafa 930 eignir

verið teknar af fólki eftir hrun og virðist ekki lát á því. Þessar eignir eru svo seldar fjárfestum fyrir brot af markaðsvirði eignanna. Dögun er umbótasinnaður flokkur sem vill koma á kerfisbreytingu, flokkur sem er lausnamiðaður. Dögun vill koma á Samfélagsbanka sem er viðskiptabanki að t.d. þýskri fyrirmynd en í Þýskalandi eru slíkir bankar, Sparkessen, með 40% af markaðnum. Þessir bankar eru viðskiptabankar sem standa ekki í áhættufjárfestingum, bankar sem lána fólki, litlum og meðalstórum fyrirtækjum fé á hóflegum vöxtum. Ef Samfélagsbankinn er með hagnað þá rennur hagnaðurinn til samfélagslegra verkefna en ekki í vasa áhættufjárfesta. Dögun vill eitt almannatryggingakerfi þar sem lífeyrissjóðirnir eru sameinaðir. Það sem sparast við sameinað lífeyriskerfi getur dugað t.d. til þess að bjóða gjaldfría heilbrigðisþjónustu. Við erum ca. 340 þús. manna þjóðfélag sem væri hægt að koma fyrir í tveimur götum í New York og við erum með 26 lífeyrissjóði ... HALLÓ ! Flottræfilsháttur og sérhagsmunapot. Dögun vill afnema verðtryggingu og gera fólki raunverulega mögulegt að búa sér sitt hreiður, hvort heldur séreign eða í gegnum leiguréttarfélög þ.e. húsnæðissamvinnufélög sem eru ekki hagnaðardrifin og fólk getur leigt til lengri tíma á hóflegri leigu. Stöndum í alvöru með fólkinu í landinu en ekki taka stöðu með fjármálakerfinu sem gamblar með peningana. Þú hefur það í hendi þinni að gera breytingar með okkur á laugardaginn. Taktu skrefið með okkur, settu X við T.


fimmtudagur 27. október 2016

VÍKURFRÉTTIR

Ég kaus Keili! Víðir Pétursson, nemandi á Háskólabrú Keilis Opið er fyrir umsóknir í Háskólabrú Keilis í eins árs fullu fjarnámi (hefst 5. janúar) eða í fjarnámi til tveggja ára sem hentar samhliða vinnu (hefst 11. nóvember). Kynntu þér námið á www.haskolabru.is

KEILIR

// ÁSBRÚ

// 578 4000

// www.haskolabru.is

25


26

ALÞINGISKOSNINGAR

2016

Við þurfum fólk eins og Oddnýju á þing Eysteinn Eyjólfsson Suðurnesjamaður

Við Suðurnesjamenn þekkjum farsælan feril Oddnýjar G. Harðardóttur í almannaþjónustu þótt stuttur sé; bæjarstjóri Garðs, fyrst kvenna formaður fjárlaganefndar, þingflokksformaður, fyrst kvenna fjármálaráðherra og formaður Samfylkingarinnar. Oddný er þó fyrst og síðast þingmaður okkar Suðurnesjamanna sem barist hefur ötullega fyrir Suðurnesin á erfiðum tímum í kjölfar hrunsins til dæmis fyrir fjárveitingum til menntastofnana svæðisins, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Miðstöðvar Símenntunar á Suðurnesjum, Fiskvinnsluskólans, Þek k ingars eturs Suðurnesja og fyrir fjármagni í rekstrarsamninga til Keilis. Oddný hefur verið eindreginn liðsmaður í varnarbaráttunni f y r i r He i l br i g ð i s s t of nu n Suðurnesja og vann ötullega að byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Nesvöllum, eitt 13 slíkra sem byggð voru um allt land í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttir. Þá innleiddi Oddný á sínum tíma ný og breytt vinnubrögð í fjárlaganefnd til eflingar vaxtasamninga, menningarsamninga og til atvinnuþróunar hér á svæðinu – sem skilaði sér í auknum framlögum í þessum málaflokkum til Suðurnesja. Oddný er í hættu á að detta út af þingi – það má ekki gerast! Á yfirstandandi kjörtímabili hefur Oddný leitt stjórnarandstöðuna í fjárlaganefnd og nýtt hæfileika sína, reynslu og áhrif til þess að minnihluti fjárlaga-

nefndar starfaði sem samhent heild og stundaði harða en ábyrga stjórnarandstöðu, veitti hægri stjórninni nauðsynlegt aðhald. Oddný hefur verið vakin og sofin yfir málefnum Suðurnesjanna nú sem fyrr og verið iðin við að leggja fram tillögur um málefni svæðisins en vont hefur verið að sjá þær langflestar felldar eða hunsaðar af þingmönnum Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Til dæmis tillögur um uppbyggingu heilsugæslu og heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum og uppbyggingu skólastofnana. Tillögu um flutning Landhelgisgæslunnar til Keflavíkurflugvallar, tillögur varðandi uppbyggingu Helguvíkurhafnar og um könnun á kostum þess að flytja innanlandsflug frá Reykjavíkurflugvelli til Keflavíkurflugvallar - svo eitthvað sé nefnt. Ferill Oddnýjar talar sínu máli. Hún hefur hiklaust tekist á við hverja áskorun og axlað ábyrgð á verkefnum fyrir samfélagið sem flestir vildu frekar vera lausir við. Hún skarar ekki eld að eigin köku. Hún lætur ekki stjórnast af sérhagsmunum, vina- eða ættartengslum. Hún vinnur í þágu almannahagsmuna – í þágu okkar. Skoðanakannanir sýna að Oddný er í hættu við að falla af Alþingi og við Suðurnesjamenn þess vegna í stórhættu að missa okkar besta þingmann. Eina leiðin til þess að koma í veg fyrir það er að setja X við S í kosningunum á laugardaginn.

SJÓNVARP V Í K U R F R É T TA

NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ WWW.VF.IS/VEFTV

SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!

Hundrað konur á konukvöldi Viðreisnar ■■Konukvöld Viðreisnar var haldið á laugardagskvöld á kosningaskrifstofu Viðreisnar að Hafnargötu 35. Um 100 konur mættu. Varaformaður Viðreisnar, Jóna Sólveig Elínardóttir, var í fararbroddi fagurrar kvennasveitar Viðreisnar og bauð gesti velkomna. Listamaðurinn Tobba stóð fyrir margvíslegum skemmtiatriðum og Pálmar Örn Guðmundsson spilaði og söng fyrir gesti. Myndirnar tala sínu máli. Það var ljósmyndari á vegum Viðreisnar sem tók myndirnar.

Áherslur Pírata Píratar hafa sett sér fimm áhersluatriði fyrir komandi þingkosningar. Efst á blaði er að vinna í að lögleiða nýja stjórnarskrá. Helstu nýjungar í nýrri stjórnarskrá sem fyrir liggur eru Albert Svan þær að öll atkvæði skuli vega jafnt, ráðherrar skuli ekki sitja Sigurðsson 8. sæti á á þingi, náttúruvernd verður lista Pírata stjórnarskrárvarin og auðlindir í Suðurkjör- verða sameign þjóðarinnar. Þetta dæmi síðasta er afar mikilvægt til að tryggja réttláta dreifingu arðs af auðlindum, sem annað áherslu atriði flokksins. Pírötum þykir ekki eðlilegt að margra milljarða arðsemi af atvinnugreinum sem nýta náttúruauðlindir skiptist eingöngu á fárra manna hendur. Við viljum að stóriðjan greiði fullt verð fyrir aðgang að orkuauðlindinni og sjávarútvegsfyrirtæki greiði markaðsverð fyrir aðgang að fiskimiðunum. Einnig vilja Píratar að þeir sem losa mengandi efni í andrúmsloftið í stað þess að setja upp fullnægjandi meng-

unarvarnir skuli greiða fyrir að fá að menga lofthjúpinn. Annað sem ný stjórnarskrá hefur í för með sér er aukið beint lýðræði, þar sem hluti almennings getur krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekin þingmál eða skotið málefnum í slíka atkvæðagreiðslu til þess að vekja Alþingi til vitundar um lýðræðislega mikilvæg mál. Þjóðaratkvæðagreiðslur verða væntanlega flestar ráðgefandi, nema Alþingi ákveði annað. Píratar styðja við íbúalýðræði í sveitarfélögum og telja að slíkt ákvæði í sveitarstjórnarlögum frá árinu 2011 sé góð lýðræðisuppbót. Efling aðkomu almennings að ákvarðanatöku er því eitt af meginmálum Pírata og rík ástæða til að styðja við nýja stjórnarskrá þess vegna. Það er spilling á Íslandi. Margar ákvarðanir yfirvalda eru leynilegar eða órekjanlegar og fólk veit í raun lítið um hvað kjörnir

stjórnmálamenn eru að gera í sínu starfi. Dæmi eru um alþingismenn sem ljúka námsgráðum í háskóla á fullu þingfararkaupi. Geðþóttaákvarðanir og sérhagsmunagæsla er orðin svo föst í sessi að margir sjá ekkert að því að hygla tilteknum atvinnugreinum eða tefja lagasetningar sem íþyngja tilteknum aðilum sem þeir tengjast. Í krafti misvægis í atkvæðum hefur kjördæmapot oft kostað skattgreiðendur stórar fjárhæðir og hraðafgreiðsla getur haft afdrifarík áhrif á samfélag og umhverfi. Ráðherrar sem sinna framkvæmdavaldi ríkisins sitja á löggjafarþinginu og smíða þar reglur fyrir sjálfa sig að fara eftir. Þetta er eitt af því sem ný stjórnarskrá mun lagfæra. Spillingu á að stöðva og stöðugleika í samfélaginu þarf að tryggja með langtímaáætlunum og markmiðum. Þetta er það sem Píratar standa fyrir.

Besta heilbrigðiskerfi í heimi? Heilbrigðiskerfið okkar er þungt í vövum, gamaldags og algerlega að hruni komið. Byggingarnar og búnaðurinn er gamall, álag á starfsfólk er meira með hverjum mánuði og kulnun heilbrigðisstarfsfólks er daglegt brauð. Guðný Við eigum Landspítala háskólaBirna. Deildarstjóri sjúkrahús í tveimur byggingum bráðamótog ennþá er verið að rífast um töku HSS hentugan stað til að byggja nýjan Skipar 5. Sæti spítala, þrátt fyrir að byrjað sé S - listans í á byggingunni við Hringbraut. SuðurkjörÞetta málefni á ekki að vera póldæmi itískur skotspónn, það verður að reisa spítalann hratt og örugglega. HSS er hinsvegar heilbrigðisstofnunin okkar. Hana eigum við að verja og betrumbæta fyrir íbúana okkar á Reykjanesinu. Til þess að geta það skortir okkur fjármagn. Stofnunin hefur verið fjársvelt of lengi en fjárframlög til stofnunarinnar eru þau lægstu á landinu (fáum minnst fjármagn á hvern íbúa á landinu) en engin haldbær afsökun eða ástæða hefur fundist fyrir því. Þetta einfaldlega „hefur alltaf verið svona“. Stofnunin er sirka 30 milljónir í mínus í ár og þar af leiðandi er erfitt að auka starfsfólk. Staðreyndin er hinsvegar sú að íbúafjöldi hefur aukist stórkostlega á þessu ári, fjölgun um 1356 íbúa bara í Reykjanesbæ (frá mars 2015 – september 2016) en einnig er talsverð fjölgun í öllum nágranna sveitarfélögunum. Það er augljóst að slík gífurleg aukning íbúa kallar á aukið þjónustustig heilsugæslu og bráðamóttöku. Hér er ekki heldur talið upp þann gífurlega fjölda erlendra ferða-

manna sem leitar í auknum mæli á bráðamóttökuna. Á bráðamóttöku HSS er ekki til nægjanlegt fjármagn til að hafa hjúkrunarfræðing í vinnu allan sólarhringinn. Eftir klukkan 19 á laugardögum og sunnudögum og til 11 morguninn eftir (í 16 klst) er ekki hjúkrunarfræðingur í vinnu á bráðamóttökunni og engar nætur heldur. Upptökusvæði HSS er 23.500 íbúar ásamt því að sinna alþjóðaflugvelli Íslands. Árið 2014 komu til dæmis 1478 sjúklingar á bráðamóttökuna án viðveru hjúkrunarfræðinga, þ.e. sjúklingar sem læknar tóku einir á móti! Hér má rökfæra talsvert um öryggi sjúklinga... Það sem af er af þessu ári 2016 er 34% aukning í komum á bráðamóttökuna með engri aukningu starfsfólks! Bráðamóttakan er að sjá sirka sömu komutölur og Akureyri sem þýðir að hún er orðin önnur til þriðja annasamasta bráðamóttaka landsins. Ef horft er til mönnunar þá eru jafnmargir hjúkrunarfræðingar á morgunvakt á bráðamóttökunni í dag eins eins og fyrir 12 árum síðan. Málið er einfalt. Bráðamóttakan okkar er ekki að anna þessu álagi. Við önnum ekki öllum þeim mikla fjölda sem til okkar leitar sem samanstendur af gríðarlegri íbúaaukningu og aukningu ferðamanna. Við erum hornsteinn samfélagsins og grunnstoð íbúa og því verðum við sem stofnun að standa undir þjónustuþörf íbúanna.

En hvað er svo hægt að gera? Að mínu mati þurfum við að efla tekjur stofnunarinnar og það getum við gert með því að opna skurðstofurnar okkar aftur sem eru einar nýjustu og flottustu skurðstofur landsins. Biðlistar eftir aðgerðum hafa aukist til muna síðustu árin. Við gætum einbeitt okkur að kvennaaðgerðum. Bið eftir kvennaaðgerðum er allt upp í 2 ár sem er allt of langur tími. Við gætum auðveldlega sinnt þessum aðgerðum hér og dregið þar með úr álagi á skurðstofur LSH. Að mínu mati er alger vitleysa að miða allri skurðtengdri starfssemi á einn spítala og dreifa þarf álaginu. Einnig verðum við að knýja fram aukin fjárlög til stofnunarinnar og leiðrétta þetta glataða, langdregna fjársvelti. Við Jón Garðar hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku HSS munum halda umræðufund um HSS fimmtudaginn 27. október á kosningarskrifstofu Samfylkingarinnar á Hafnargötu 19. Samfylkingin hefur sett heilbrigðiskerfið sem aðal baráttumál sitt fyrir komandi kosningar og við munum leggja mikla áherslu á eflingu HSS. Við erum góð, við getum þetta og við eigum að gera þetta. Það verður að bregðast við þessu ástandi, ekki bara fyrir íbúana heldur einnig fyrir starfsfólkið sem er að sligast. Við getum þetta ekki mikið lengur.


28

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 27. október 2016

STÓRBRUNINN

SEM BREYTTI VERSLUNARSÖGUNNI Það er leikur að læra á Vesturbergi Að fá að njóta sín á eigin forsendum, að fá að leika í friði, að fá að efla sköpunarþörf, að efla ímyndunarafl og að fá að sýna frumkvæði eru nokkrir þættir sem börn á Vesturbergi fá notið. Bráðum tvítugur leikskólinn hefur haldið í þær hefðir og það skipulag sem upphaflega var lagt af stað með árið 1997. Ein af þeim fáu kennsluaðferðum sem bætt hefur verið við í Vesturbergi er Leikur að læra. Leikur að læra er kennsluaðferð þar sem börnum á leikskólaaldri og fram að miðstigi í grunnskóla eru kennd bókleg fög í gegnum leiki og hreyfingu á skemmtilegan, líflegan og árangursríkan hátt. Það er svo ótrúlega heppilegt þegar aðferðir finnast þar sem allir, bæði kennarar og nemendur njóta sín. Kennarinn fær í hendurnar frábært verkfæri þar sem hann getur notað ýmsar aðferðir til að kenna bæði læsi og stærðfræði. Kennarar sem nýta sér aðferðir Leikur að læra

fara smátt og smátt að tileinka sér námsefnið frá öðru sjónarhorni, frá sjónarhorni barnanna og þörf þeirra til að hreyfa sig. Einn hluti af kennsluaðferðinni er foreldraverkefni, en tvo morgna í viku gera börnin verkefni þar sem foreldrar taka þátt með börnum sínum, framkvæma verkefni og hreyfingu í kjölfarið. Foreldrar hafa áhuga og hafa sýnt heilmikla leikni í verkefnunum. Vesturberg varð hluti af Leikur að læra liðinu í ágúst síðastliðnum eftir vetrarlangt innleiðingarferli. Alls eru leikskólarnir fimmtán sem eru hluti af Leikur að læra liðinu. Höfundur aðferðarinnar er Kristín Einarsdóttir íþróttakennari en hún er einnig eigandi. Spennandi tímar eru framundan hjá Leikur að læra liðinu en á næstunni er ráðstefna/vinnustofur fyrir liðið. Brynja Aðalbergsdóttir, leikskólastjóri Vesturbergi

Þörfin er æpandi Raforka er nauðsynleg öllum nútíma samfélögum og þar með okkur Suðurnesjamönnum. Ört vaxandi mannlíf og fjölbreytt atvinnulíf kallar á meiri raforku. Þörfin er í raun Kjartan Már æpandi og til að mæta henni Kjartansson, hefur um langt skeið verið bæjarstjóri unnið að lagningu SuðurnesReykjanesjalínu 2. bæjar og formaður Henni er ætlað margs stjórnar Almannavarna konar hlutverk. Suðurnesja Í fyrsta lagi að auka afhendskrifar. ingaröryggi til Suðurnesja en

í dag er bara ein háspennulína inn á Reykjanesskagann. Ekki er hægt að taka hana niður og sinna nauðsynlegu viðhaldi því þá stöðvast raforkuflutningur inn á svæðið á meðan. Vegna vaxandi viðhaldsþarfar aukast líkurnar á því að línan bili með ófyrirsjáanlegum alvarlegum afleiðingum fyrir íbúa og atvinnulíf.

●●20 ár frá því BYKO opnaði á Suðurnesjum í kjölfar stórbruna í Járn & Skip Suðurnesjalínu 2 er einnig ætlað að svara vaxandi eftirspurn eftir raforku á svæðinu en mikil uppbygging er fyrirsjáanleg í ýmsum atvinnugreinum sem nota mikla raforku í sinni starfsemi. Má þar nefna flugvöllinn, gagnaverin, stóriðju í Helguvík og svo auðvitað ört stækkandi íbúabyggð á öllum Reykjanesskaganum. Í þriðja lagi eru tvær afkastamiklar virkjanir í Svartsengi og á Reykjanesi sem selja raforku út á landsnetið og þurfa að geta komið þeirri orku frá sér. Umferðin um þessar raforkulínur er því mikil og fer ört vaxandi. Það er því mikilvægt, bæði út frá öryggissjónarmiðum og vaxandi þörf, að sú deila sem nú ríkir um lagningu Suðurnesjalínu 2 verði leyst hratt og vel, svæðinu til heilla.

Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,

Reynir Jónsson,

Sunnubraut 16, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, föstudaginn 21. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 3. nóvember kl. 13:00. Sævar Reynisson, Guðmundur Óli Reynisson, Jóhanna Reynisdóttir, Guðný Reynisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn,

Gunnhildur Guðlaugsdóttir, Svala Rún Jónsdóttir, Ólafur Eyþór Ólason, Axel Arnar Nikulásson,

Stórbruni í verslunarhúsnæði Járn & Skip í lok júní árið 1996 varð upphafið af miklum breytingum á byggingavörumarkaði á Suðurnesjum. Í kjölfar brunans hætti Kaupfélag Suðurnesja rekstri byggingavöruverslunar og BYKO opnaði þess í stað verslun sína í nýbyggingu sem reis úr brunarústunum. „Eldhafið hlífði engu“ var skrifað með stríðsletri ofan í forsíðumynd Víkurfrétta í júlí 1996, fyrir tuttugu árum. Tjónið var metið vel á annað hundrað milljónir króna á þeim tíma sem er uppreiknað um 400 milljónir í dag. Suðurnesjamenn voru þó ekki án byggingavöruverslunar í marga daga. Bruninn varð á laugardegi og strax fimmtudaginn eftir hafði Járn & Skip opnað verslun með nauðsynjar fyrir iðnaðarmenn. Eldurinn við Járn & Skip kom upp í timburporti verslunarinnar. Þegar fyrstu slökkviliðsmenn komu á vettvang voru um 300 rúmmetrar af timbri alelda. Ágerðist eldurinn fljótt og voru slökkviliðsmenn í mestu vandræðum að eiga við hann. Allt tiltækt slökkvilið frá Keflavík og Sandgerði kom á staðinn og fljótlega var kallað á aðstoð frá Keflavíkurflugvelli. Slökkviliðið hafði um 25 tonn af vatni meðferðis á brunastað. Þá voru tengdir brunahanar og jafnframt var sjó dælt á bálið. Lögreglan rýmdi nálægt íbúðarhúsnæði en gríðarlegan reyk lagði yfir bæinn í norð-vestur.

1200 gráðu hiti í brennandi húsinu

Sigmundur Eyþórsson, þáverandi slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, hafði nýlega tekið við slökkvistjórastarfinu á þessum tíma og bruninn í Járn & Skip var hans eldskírn í starfi. Hann sagði í samtali við Víkurfréttir á þessum tíma að aðeins 10 mínútum eftir að útkallið barst hafi eldurinn náð inn í verslunina. Gler í gluggum í timburportinu gaf sig í hitanum. Mikill hiti gerði slökkviliðsmönnum erfitt fyrir. Í frétt Víkurfrétta frá þessum tíma segir að talið er að hitinn inni í húsinu hafi verið 1200 gráður þegar það var að brenna.

Hitinn í eldhafinu hlífði engu. Málningarfötur sprungu í loft upp og eldfim málningin fuðraði upp á augabragði. Slökkviliðsmenn höfðu hins vegar áhyggjur af áburðarbruna í versluninni því reykur af brennandi áburði er mjög eitraður. Slökkvistarfið tók um fjórar klukkustundir. Tveir slökkviliðsmenn meiddust í slökkvistarfinu. Vöðvi í fæti skaddaðist hjá öðrum og hinn tognaði í baki. Þrír piltar á aldrinum 12 til 13 ára viðurkenndu fyrir lögreglu að hafa verið að reykja við timburstæðu í portinu tvisvar sinnum þennan dag og hafa hent sígarettum í þær án þess að drepa í þeim. Verslunarhúsið gjöreyðilagðist í brunanum. Kaupfélag Suðurnesja ákvað að ráðast strax í uppbyggingu og opnaði verslun við rústirnar nokkrum dögum síðar. „Sumartíminn er mikil vertíð fyrir byggingavöruverslun eins og Járn & Skip. Bruninn snertir í raun öll heimili á Suðurnesjum,“ höfuð Víkurfréttir eftir Skúla Þ. Skúlasyni hjá Kaupfélagi Suðurnesja í fyrsta blaði eftir brunann mikla.

BYKO tekur við af Járn & Skip

Uppbygging verslunarhúss hófst strax af krafti á rústum hússins sem brann. Um haustið 1996 var hins vegar greint frá því að Kaupfélag Suðurnesja hafi gert leigusamning við BYKO um rekstur byggingavöruverslunar Járn & Skip frá 4. október. Kaupfélag Suðurnesja muni frá sama tíma hætta alfarið byggingavörusölu. Mun Kaupfélagið leigja BYKO nýbygginguna sem var að rísa á brunarústunum, ásamt porti og plötuhúsi, þar sem byggingavöruverlsunin hafði verið rekin til bráðabirgða. Í frétt Víkurfrétta frá 12. september

1996 segir að BYKO hafi á þessum tíma verið tíu sinnum stærra á byggingavörumarkaði en Járn & Skip. „Við mátum stöðuna út frá byrjunarreit og markaðsaðstæðum,“ sagði Guðjón Stefánsson, þáverandi kaupfélagsstjóri Kaupfélags Suðurnesja. Verslunarhúsið sem reis á brunarústunum var 1100 fermetrar á einu gólfi. Fyrri áfangi þess átti að verða tilbúinn í október 1996 og húsið fullklárað í janúar 1997.

Starfsfólk verslunarinnar hafi mátt búa við mjög erfið starfsskilyrði Guðjón sagði að þær miklu hremmingar sem Kaupfélagið hafi lent í við brunann hafi að sjálfsögðu komið illa við marga fleiri en félagið sjálft. Starfsfólk verslunarinnar hafi mátt búa við mjög erfið starfsskilyrði og hafi það sýnt einstaka þolinmæði og dugnað við ákaflega erfiðar aðstæður. Viðskiptamenn hafi einnig sýnt versluninni einstaka tryggð á þessum tíma.

Sjálfkrafa í reikningsviðskiptum

BYKO tók við verslunarrekstrinum í byrjun október 1996 og auglýsti í Víkurfréttum þann 10. október að starfsfólk BYKO bjóði Suðurnesjamenn velkomna í áframhaldandi viðskipti að Víkurbraut. Þar var jafnframt tekið fram að allir sem voru í reikning hjá Járn & Skip væru sjálfkrafa í reikning hjá BYKO. „Leitast er við að bjóða ávallt hagstæðustu kjörin á markaðnum og því gildir sama verð á Suðurnesjum og í örðum verslunum BYKO. BYKO býður uppá fjölbreytt reikningsviðskipti fyrir verktaka, einstaklinga og fyrirtæki,“ sagði í auglýsingu BYKO frá því fyrir tveimur áratugum.


fimmtudagur 27. október 2016

29

VÍKURFRÉTTIR

Í frétt Víkurfrétta frá þessum tíma segir að talið er að hitinn inni í húsinu hafi verið 1200 gráður þegar það var að brenna. Hitinn í eldhafinu hlífði engu. Málningarfötur sprungu í loft upp og eldfim málningin fuðraði upp á augabragði.

Fyrsti viðskiptavinurinn og enn að Lúðvík Gunnarsson pípulagningameistari var fyrsti viðskiptavinur BYKO þegar verslunin opnaði haustið 1996. Lúðvík er enn daglegur viðskiptavinur BYKO og mætti í afmæliskaffi verslunarinnar sl. föstudag. Þar var hann leystur út með gjöf. Á myndinni eru þau Íris Sigtryggsdóttir, verslunarstjóri BYKO Suðurnes, Sveinbjörg Sigurðardóttir, Systa, sem hefur starfað hjá BYKO Suðurnes frá því verslunin opnaði og Lúðvík Gunnarsson. VF-mynd: Hilmar Bragi

Unnið hjá BYKO frá fyrsta degi ●●Við erum bara lítil fjölskylda og kúnnahópurinn er líka skemmtilegur Sveinbjörg Sigurðardóttir, eða Systa, eins og hún er alltaf kölluð, hefur starfað hjá BYKO í 20 ár og segir vinnustaðinn eins og eina litla fjölskyldu. „Ætli það sé ekki bara fólkið,“ svarar Systa þegar hún er spurð að því hvað hafi haldið henni í starfinu í öll þessi ár. „Við erum mörg hérna búin að vera í meira en 10 ár. Það

segir manni hvað það er gott að vinna hérna. Við erum bara lítil fjölskylda. Kúnnahópurinn er líka skemmtilegur, maður er farinn að kannast við flesta.“ Systa starfaði hjá Járn & Skip áður, en var í fæðingarorlofi þegar bruninn átti sér stað. Hún kom þó fljótlega eftir og hjálpaði til við að þurrka nótur og rýna í hluti eftir brunann.

Aðspurð hvort salan sé sveiflukennd eftir ástandinu í samfélaginu svarar Systa játandi, „Já, salan hrundi í kreppunni og það þurfti að skera niður alls staðar. Nú er verið að bæta í aftur. Svo eru jólin líka að koma og við erum að byrja að setja upp jólavörur. Þær verða komnar upp í næstu viku. Það er alltaf eitthvað.“

Eitthvað svo notalegt við þetta fyrirtæki ●●segir Íris Sigtryggsdóttir verslunarstjóri BYKO Suðurnes

Verslun Járn & Skip gjöreyðilagðist í brunanum.

Í rústunum eftir brunann. Byggingin var gjörónýt.

Keflvíkingurinn Íris Sigtryggsdóttir tók við stöðu verslunarstjóra hjá BYKO Suðurnesjum fyrir um tveimur árum en áður hafði hún verið svæðisstjóri hjá upplýsingaveitunni JÁ í Reykjanesbæ í átta ár og reyndi svo fyrir sér hjá hugbúnaðarfyrirtæki áður en starfið hjá BYKO bauðst henni. „Ég stýrði áður þjónustu- og upplýsingafyrirtæki þar sem nánast störfuðu eingöngu kvenmenn og fyrirtækið kvenlægt líka sem var mjög skemmtilegt. Það var því áskorun að fara hingað. Ég var hins vegar á tímamótum og datt niður á þetta verslunarstjórastarf, sótti um og fékk starfið. Áskoranir af ýmsum toga heilla alltaf, þetta hljómaði sem spennandi starf hjá stóru og rótgrónu fyrirtæki og alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt,“ sagði Íris þegar Víkurfréttir ræddu við hana skömmu eftir að hún tók við starfi verslunarstjórans. Íris þekkir vel til aðeins til starfa iðnanarmanna því hún hóf störf hjá Keflavíkurverktökum fyrir tæpum tveimur áratugum og starfaði þar í tíu ár. „Það kom mér skemmtilega á óvart hvað BYKO er flott fyirtæki. Það er eitthvað svo notalegt við þetta fyrirtæki sem ég þekkti lítið til, samstaða og samhugur sem kemur fram hjá starfsfólkinu. Hér hefur sama starfsfólkið verið til margra ára, margir í tugi ára. Þegar ég kom fyrst til fyrirtækisins fór ég í meiriháttar starfsþjálfun hjá BYKO bæði í Reykjavík, Selfossi og víðar. Þar var ég í timburdeildunum og lagnadeildunum

Kaka og drykkur Fjölmargir lögðu leið sína í afmæliskaffi í verslun BYKO við Víkurbraut sl. föstudag þegar 20 ára afmælinu var fagnað. og fékk í raun kynningu inn á allar deildir fyrirtækisins. Þar var ég að hitta fólk sem hefur starfað hjá BYKO í 30 ár og 40 ár. Það er hending ef það er einhver búinn að starfa hér minna en 15 ár,“ segir Íris og brosir þegar hún var spurð hvernig það hafi verið að koma til BYKO. „Það sagði mér ýmislegt um fyrirtækið. Þetta er fjölskyldufyrirtæki og andrúmloftið notalegt sem skýrir þennan háa starfsaldur hjá fyrirtækinu. Þetta kom mér skemmtilega á óvart“.

Hér er gríðarleg reynsla og þekking

„Hér er starfsfólk sem býr að gríðarlegri reynslu og þekkingu. Þjónustulundin og metnaðurinn er einnig svo mikill hjá þessu fólki. Að koma inn í þetta starf með litla og enga þekkingu á vöruflokkunum er áskorun,“ segir Íris en hjá BYKO eru á milli 3540.000 vöruflokkar. „Ég mun aldrei verða sérfræðingur í þessu öllu en það bætist við þekkinguna á hverjum degi. Starfsfólkið hér er orðið sérfræðingar hver á sínu sviði“.


30

VÍKURFRÉTTIR

Óli og Milan þjálfa Grindavík á næstu leiktíð

„Ekki gleyma því að vera með bros á vör og hafa gaman“

■■Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur skrifað undir samninga við þá Óla Stefán Flóventsson og Milan Stefán Jankovic um þjálfun á meistaraflokki karla fyrir komandi leiktíð. Nýlega skrifaði félagið undir samning við spænska framherjann Juan Manuel Ortiz en hann spilaði með Grindvíkingum í Inkasso deildinni síðastliðið sumar. Grindvíkingar enduðu í öðru sæti og komust upp um deild og munu því spila í Pepsi deildinni næsta sumar.

Sveindís Jane Jónsdóttir, 15 ára knattspyrnukona og leikmaður Keflavíkur, fór á reynslu til sænska úrvalsdeildarliðsins Kristianstad á dögunum, en það lið er með íslenskan þjálfara að nafni Elísabet Gunnarsdóttir. Sveindís þykir svakalega efnileg, var valin leikmaður ársins í meistaraflokki kvenna í ár og hefur meðal annars spilað með U19 ára landsliði Íslands, aðeins 15 ára gömul. Víkurfréttir náðu tali af Sveindísi þegar hún var á leið til Írlands með U17 landsliðinu að spila í undankeppni EM 2017.

●●Sveindís Jane til reynslu hjá Kristianstad Þú fórst á reynslu til Kristianstad um daginn, hvernig gekk það? Hvernig leist þér á liðið og aðstæður?

Mér gekk ágætlega úti í Svíþjóð og leist mjög vel á liðið. Það var góð einbeiting á æfingu, hærra tempó en ég er vön og góðar aðstæður.

Veistu hvernig þeim leist á þig? Þekkir Elísabet, þjálfari liðsins, til þín?

Ég veit ekki hvernig þeim leist á mig, ég vona bara það besta. Elísabet er frábær þjálfari og ég held hún þekki bara ágætlega til mín.

Hefur það verið draumur hjá þér að fara í atvinnumennsku?

Hvernig finnst þér að keppa fyrir Íslands hönd í undankeppni EM og hvaða möguleika telur þú liðið eiga?

Ég er rosalega bjartsýn fyrir þessari keppni. Við eigum góðan séns á að vinna riðilinn okkar og fara alla leið.

Hvaða markmið hefur þú persónulega fyrir þessa undankeppni?

Markmið mín eru að vera landinu og liðinu mínu til sóma, gera mitt allra besta og ekki gleyma því að vera með bros á vör og hafa gaman! Þetta er geggjaður hópur, æðislegir þjálfarar og ekki má gleyma fararstjórunum sem redda bókstaflega öllu! Er svo ánægð að fá að vera partur af þessum frábæra hóp.

Já þetta hefur verið draumur minn í langan tíma, að fara út í atvinnumennsku þegar ég er orðin eldri! Það var alveg frábært að fá að upplifa að fara á reynslu til Kristianstad.

„Við eigum góðan séns á að vinna riðilinn okkar og fara alla leið“

„Við erum ekki á þeim stað sem við viljum vera á“ ●●„Ættum að geta nýtt þessa leiki sem við höfum spilað og spyrnt frá okkur,“ segir Björn Steinar Brynjólfsson, þjálfari Grindavíkur Kvennalið Grindavíkur í Domino´s deildinni í körfubolta hefur ekki sýnt sitt rétta andlit það sem af er móti en síðan í byrjun tímabils hafa t ve i r ly k i l menn glímt við meiðsli sem hefur ef laust haft sitt að segja. Víkurfréttir ræddu við Mynd: www.karfan.is Björn Steinar Brynjólfsson, þjálfara Grindavíkur um liðið og komandi átök. Fimm umferðir búnar í deildinni (að vísu fór 6. umferðin fram í gærkvöldi en þá var blaðið farið í prentun) og gengi liðsins ekki eftir óskum. Einn sigur og fjögur töp staðreynd. Hverjar telur þú vera helstu orsakir þess? Það eru nokkrir þættir sem koma að því en ég tel að við getum nýtt okkur þá leiki sem við höfum spilað og spyrnt frá okkur. Ég má til með að

nefna vöntun Lengjubikarsins sem hefur verið góður undirbúningur liða undanfarin ár. Við erum ekki orðin nægilega slípuð saman enn sem komið er. Höfðu meiðsli Ingunnar og Ingibjargar mikil áhrif á liðið? Já, vissulega voru þau mikil blóðtaka. Þetta eru máttarstólpar liðsins ásamt öðrum reynslumiklum leikmönnum. Hrund Skúladóttir hefur líka verið frá vegna veikinda og er óvitað hvenær hún kemur aftur á parketið. Þegar svona kemur upp þá ætlast maður til þess allir bæti við sig og stígi upp. Það hefur því miður ekki gengið alveg upp sem skildi. Þær eru að koma til baka og vonandi koma þær tvíefldar til leiks á ný. Hvað þurfið þið að leggja áherslu á til að komast aftur á beinu brautina? Við þurfum öll að líta í eigin barm og sjá hvað maður getur gert betur til að hjálpa liðinu. Það á við alla sem koma að þessu. Þegar við vinnum sem

HEIÐARLEIKI - FAGMENNSKA - METNAÐUR

RB

RB

RB

fimmtudagur 27. október 2016

■■Guðjón Árni Antoníusson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnulið Keflavíkur og spilar með þeim í Inkasso deildinni á næsta ári. Guðjón hóf feril sinn með Keflavík árið 2002 og hefur síðan þá spilað 233 leiki með Keflavík og var bikarmeistari með liðinu 2004 og 2006. Ásamt því að spila með Keflavík mun Guðjón sjá um þrek- og styrktarþjálfun leikmanna meistaraflokks karla. „Það er mikill fengur að hafa Guðjón áfram hjá klúbbnum í þeirri baráttu sem er framundan að komast upp í deild þeirra bestu,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Tveir Suðurnesjaslagir í Maltbikarnum ■■Dregið var í bikarkeppni KKÍ síðasta föstudag sem nú hefur fengið nafnið Maltbikarkeppnin. Breytt fyrirkomulag verður í ár og fara undanúrslitin nú fram sömu helgi og úrslitin. Í 32 liða úrslitum karla drógust saman Keflavík og Njarðvík, alvöru nágrannaslagur þar strax í upphafi móts. Grindavík dróst gegn Stjörnunni og Njarðvík B gegn ÍB. Í 8 liða úrslitum kvenna drógust einnig saman tvö Suðurnesjalið, Grindavík og Njarðvík en Keflavík situr hjá í fyrstu umferðinni.

liðsheild þá „fúnkerar“ þetta mjög vel fyrir okkur. Til að spila gegn liðum sem eru á meðal þeirra bestu, þá eru varnarleikur og fráköst lykilatriði sem hafa þarf í huga. Ashley Grimes hefur verið að skila fínum tölum. Hverjir eru hennar helstu kostir og gallar fyrir liðið? Og ertu ánægður með hennar framlag og hlutverk í liðinu? Hún er mikill íþróttamaður og hefur allan pakkann. Við höfum rætt saman og hef ég séð framfarir hjá henni í því sem ég ætlast til af henni og vonast til þess að það haldi áfram. Ykkur var spáð þriðja sætinu í deildinni. Hvert er ykkar markmið? Það er ekkert leyndarmál miðað við markmiðin sem við settum niður fyrir tímabilið að við séum ekki á þeim stað sem við viljum vera á. Við munum setjast niður aftur fljótlega til að fara yfir þau markmið og sjá hverju það skilar okkur.

SELUR ALLT

RB

Guðjón Árni framlengir við Keflavík

GR

Samið við Evu Maríu og Eydísi Evu ■■Körfuknattleiksdeild Keflavíkur heldur áfram að semja við unga og efnilega leikmenn. Nú hefur verið samið við tvær 16 ára heimakonur, þær Evu Maríu Lúðvíksdóttur og Eydísi Evu Þórisdóttur, sem báðar eru margfaldir Íslands- og bikarmeistarar með yngri flokkum Keflavíkur.

SMÁAUGLÝSINGAR Óskast til leigu 3ja manna fjölskylda,(miðaldra par og 12 ára barn). Óska eftir íbúðarhúsnæði í Vogum Vatnsl. eða annarstaðar á Suðurnesjum. Kostur ef bílskúr fylgir. Róleg,reglusöm og skilvís. Upplýsingar í síma 771 1295, Einar.

Verið velkomin

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00

GR

Þórarinn Kópsson

Páll Þorbjörnsson

Arnar Hólm

Elínborg Jensdóttir

Þorbjörn Pálsson

Dagbjartur Willardsson

Löggiltur fasteignasali

Aðstoðarmaður

Aðstoðarmaður

Aðstoðarmaður

Löggiltur fasteignasali

Aðstoðarmaður

Sími: 615-3343

Sími: 698-6655

Sími: 892-4445

Sími: 823-1334

Sími: 898-1233

Sími: 861-7507

RB ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALA SUÐURNESJA Hafnargata 91 - Reykjanesbær - sími 560-5515 sudurnes@alltfasteignir.is

GR ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALAN Í GRINDAVÍK Víkurbraut 46 - Grindavík - sími 426-8890 - grindavik@alltfasteignir.is

Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

www.vf.is

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja Miðlarnir Guðrún K. Ívarsdóttir og Dolores Foley verða með opinn fund miðvikudaginn 2. nóv kl. 20:30 í húsi félagsins að Víkurbraut 13 í Keflavík. Húsið opnar kl 20:00. Aðgangseyrir er 2500 kr. Allir velkomnir.


fimmtudagur 27. október 2016

31

VÍKURFRÉTTIR

ALÞINGISKOSNINGAR LAUGARDAGINN 29. OKTÓBER 2016

„Við verðum að vera með ljósin kveikt á hverri æfingu“

Kosið er í Gerðaskóla. Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.

●●Daníel Guðni, þjálfari karlaliðs Njarðvíkur segir marga jákvæða hluti í gangi hjá liðinu þessa dagana Dominos deild karla er nýfarin af stað en þrjár umferðir hafa verið spilaðar. Karlaliði Njarðvíkur var fyrir upphaf móts spáð fimmta sætinu af þjálfurum, formönnum og fyrirliðum allra liðanna í deildinni. Víkufréttir ræddu við Daníel Guðna Guðmundsson, þjálfara Njarðvíkur, um liðið og það sem af er tímabils. Þrjár umferðir búnar af deildarkeppninni, einn sigur og tvö töp hjá Njarðvík. Hvað finnst þér um gengi liðsins hingað til? Hvað mætti betur fara og hvað er jákvætt? Þó svo að við myndum vilja vera með þrjá sigurleiki í farteskinu, þá eru margir jákvæðir hlutir í gangi hjá okkur þessa dagana. Liðsandinn er góður og það er stígandi í sóknarleiknum. Við þurfum að vinna enn betur í varnarleik okkar, sem ég vil sjá að verði okkar einkennismerki í vetur. Til þess að við vöxum sem lið þurfum við að vera með ljósin kveikt á hverri æfingu, temja okkur góðar venjur að hjálpast að til þess að vera enn betri.

Kjörstjórn Sveitarfélagsins Garðs

Bonneau kom nokkuð öflugur inn í leikinn gegn Stjörnunni. Er hann að ná fyrri styrk? Það var virkilega gaman að sjá hann á parketinu aftur en hann á nokkuð í land með að ná fyrri styrk. Óskandi verður hann 100% fyrr en seinna.

KOMBÓTILBOÐ

Snjólfur er gríðarlega efnilegur ungur leikmaður, og er með flest fráköst Njarðvíkinga í þessum þremur leikjum. Hvaða vonir bindur þú við hann í vetur? Hann býr yfir þannig dugnaði að hver þjálfari vill eiga svona leikmann innan sinna raða. Alltaf tilbúinn að hlusta og læra og leggur sig alltaf fram. Snjólfur hefur byrjað inn á í þessum þremur leikjum sem liðnir eru af tímabilinu og ég hef mikla trú á því að hann vaxi í vetur.

BAJA 799

Shouse virðist hafa tekist að koma Snjólfi aðeins úr jafnvægi í leiknum. Hvað hefur þú að segja um það? Það var nokkuð hátt spennustigið í leiknum og mikil átök á milli tveggja góðra liða. Snjólfur er klár strákur og er gríðarlega kappsamur, og vil ég ekki draga úr honum þann þrótt, en hann steig aðeins út fyrir ramman okkar í leiknum gegn Stjörnunni og hann veit það.

kjúklingur og beikon

kr.

+ 0,5 l Pepsi og KitKat

Næsti leikur gegn Tindastól. Hvað munuð þið leggja áherslu á í þeim leik? Við förum inn í leikinn með leikskipulag sem við munum fylgja og óskandi að það og góður varnarleikur gefi okkur jákvæð úrslit.

PIPAR \ TBWA • SÍA • 164298

Þið eruð með tvo erlenda leikmenn sem mega ekki spila báðir í einu. Hvernig gengur það? Býstu við að halda því fyrirkomulagi áfram út tímabilið? Það gengur ágætlega enn sem komið er, þar sem Stefan er enn að koma til baka úr meiðslum. Þegar báðir erlendir leikmenn mínir eru heilir þá verður það vissulega krefjandi að vinna með réttu blönduna, en sterkasta blandan er inn á hverju sinni, svo einfalt er það.

Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00.

Þú velur bát, vefju eða salat

quiznos.is HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ: NORÐLINGAHOLTI · GULLINBRÚ · ÁLFHEIMUM SÆBRAUT · MJÓDD · GARÐABÆ · MOSFELLSBÆ

Sigurður með brons og Ægir hreppti silfur ■■Haustmót seniora í Júdó var haldið síðastliðna helgi á Selfossi. Júdódeild Grindavíkur fékk eitt brons en það var Sigurður Björgvinsson sem keppti í flokki karla 100+. Njarðvíkingurinn Ægir Baldvinsson keppti í flokki karla -66 og hreppti silfur.

VF.IS Í NÝJUM FÖTUM

LANDSBYGGÐIN: BORGARNESI · AKRANESI · AKUREYRI REYÐARFIRÐI · KEFLAVÍK · SELFOSSI · HELLU

TÖLVUNNI

FYLGSTU MEÐ Í...

SNJALLSÍMANUM

SPJALDTÖLVUNNI


Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

Mundi X-M Kláðan burt!

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

twitter.com/vikurfrettir

instagram.com/vikurfrettir

LOKAORÐ Örvars Kristjánssonar

Túristar Hin gríðarlega aukning ferðamanna hér á landi hefur ekki farið framhjá neinum. Ferðaþjónustan er orðin ein af mikilvægustu atvinnugreinum þjóðarinnar og vöxturinn virðist endalaus. Frá árinu 2010 hefur fjöldi ferðamanna þrefaldast. Eyðsla allra ferðamanna nam hér um 210 milljörðum króna árið 2015. Svo sannarlega jákvætt og þetta er okkur öllum til heilla þótt vissulega séu ákveðnir vaxtaverkir sem fylgja eins og sú staðreynd að innviðauppbygging hefur ekki fylgt eftir þeim mikla vexti sem verið hefur í fjölgun ferðamanna. Stjórnvöld þurfa að gera mikið betur í þeim málum, til dæmis hefur það ekki farið framhjá neinum hérna á svæðinu að ástand Reykjanesbrautar er algjörlega óásættanlegt. Stjórnvöld verða að setja þessi mál í algjöran forgang, annars er sú hætta fyrir hendi að slysum fjölgi enn frekar og orðspor okkar sem öruggt land bíði hnekki. Huga þarf einnig að náttúruvernd, til dæmis á sumrin við mestu náttúruperlur okkar. Dreifing ferðamanna um landið er sennilega eitt mikilvægasta verkefni ferðaþjónustunnar í dag. Hér í Reykjanesbæ hefur vissulega orðið fjölgun ferðamanna en staðreyndin er samt sú að allt of mikill fjöldi keyrir hreinlega bara hér í gegn og veit ekkert um það hvað hér er í boði. Á meðan heyrast raddir úr 101 Reykjavík þar sem fólk kvartar yfir of mörgum ferðamönnum. Í Reykjanesbæ er hins vegar pláss fyrir miklu fleiri. Við þurfum að vera dugleg að tala upp bæinn okkar, því miður hefur maður tekið eftir því að fólk tali frekar bæjarfélagið niður. Ferðaþjónustan er mjög samofin öðrum greinum hagkerfisins því ferðamenn kaupa ekki bara flug og gistingu heldur aðra vöru og þjónustu. Í Reykjanesbæ og næsta nágrenni er fullt af áhugaverðum stöðum, veitingum, verslunum og þjónustu. Sjálfur var ég staddur uppi í flugstöð í sumar og varð vitni að samtali tveggja erlendra ferðamanna við starfsmann í Leifsstöð. Þau voru að velta fyrir sér góðum stað að kíkja á en ekki of langt frá vegna tímaleysis. Þessi starfsmaður sagði þeim að fyrir utan Bláa Lónið þá væri nú ekkert merkilegt í nágrenninu nema þá að keyra til Reykjavíkur. Ég var ekki lengi að skipta mér af og benti þessu ágæta fólki sem dæmi á Kaffi Duus ásamt því sem ég sagði þeim frá Vatnaveröld ef þau vildu skola af sér fyrir komandi ferðalag og svo las ég viðkomandi starfsmanni pistilinn. Það var þó svona frekar á vinalegum nótum. Það er nefnilega okkar að tala bæjarfélagið upp og mæra allt það sem hér er í boði, það skilar sér alltaf að lokum. Það sem er hversdagslegt í huga okkar er sennilega afar merkilegt í huga ferðamannsins, svo er Reykjanesbær bara alls ekkert svo slæmur. Því þrátt fyrir erfiða skuldastöðu þá eru hér fjölmörg jákvæð teikn á lofti og við verðum að horfa fram en ekki alltaf aftur. Við viljum stærri hluta af túrista- kökunni, tækifærin eru svo sannarlega fyrir hendi, við þurfum að hafa trú á okkar.

Laddi stýrði haustfagnaði á Hlévangi

■■Haustfagnaður heimilisfólks, aðstandenda og starfsmanna Hrafnistu á Hlévangi í Reykjanesbæ fór fram síðasta fimmtudag. Þórhallur Sigurðsson, Laddi, sá um veislustjórn og var ansi glatt á hjalla eins og ævinlega gerist þar sem Laddi birtist til að gleðja fólk með uppátækjum sínum, söng og gamansögum.

Meðfylgjandi ljósmyndir tók Hreinn Magnússon á haustfagnaðinum.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
42 tbl 2016 by Víkurfréttir ehf - Issuu