Skip to main content

45 tbl 2015

Page 1

Víkurfréttir

Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000

Póstur: vf@vf.is

Nýr& betri opnunartími

Virka daga 9-20

Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17

Helgar 10-20 Nettó reykjaNesbæ

Auglýsingasíminn er 421 0001

vf.is

F IMMTUDAGUR 19. NÓ VE MBE R 2 0 15 • 45 . TÖ LU BLA Ð • 36. Á RGA NGU R

Frönsku fánalitirnir í flugstöðinni XXFlugstöð Leifs Eiríkssonar verður í frönsku fánalitunum næstu daga til stuðnings við frönsku þjóðina. Eins og sjá má á myndinn tekur flugstöðin sig vel út með listaverkið Hreiðrið baðað í litunum í froststillunni.

ATH!

NÝR OG BETRI

OPNUNARTÍMI

Hætta samstarfi en skoða sameiningu

-eining í Bæjarstjórn Reykjanesbæjar um að slíta samstarfi sveitarfélaga á Suðurnesjum en skoða frekar sameiningu

B

æjarfulltrúar í Reykjanesbæ eru allir sammála um að slíta samstarfi sveitarfélaga á Suðurnesjum í núverandi mynd. „Ég legg til að við slítum samstarfi þar sem það á við. Við getum ekki haldið þessu áfram svona,“ sagði Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar og oddviti Samfylkingar á bæjarstjórnarfundi í vikunni. Samstarf sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum (SSS) verður fjörutíu ára á næsta ári. Fulltrúar Reykjanesbæjar greindu frá því á ársfundi SSS fyrr í haust að nú væri komið að tímamótum í samstarfinu. Í ljósi erfiðrar fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar þyrfti bæjarfélagið að gera það sem væri hagstæðast fyrir það en ekki heildina í samstarfinu. Nokkur verkefni hafa verið rekin með halla og þó svo Reykjanesbær sé með nærri 70% stærð í samstarfinu miðað við íbúafjölda hefur hann eingöngu verið með einn fulltrúa og eitt atkvæði í stjórn á móti hinum sveitarfélögunum. Nýlega óskaði Reykjanesbær eftir því að fá meira vægi innan stjórnarinnar og lagði til að fjölga um tvö fulltrúa sem hann fengi en sú tillaga var felld í stjórn SSS. Öll hin fjögur sveitarfélögin voru á móti því.

„Samstarf er gott og hefur oft gengið vel en lýðræðishallinn hefur ekki verið til góðs. Samstarfið er ómarkvisst og fjárfrekt, lítil ábyrgð og fjármálastýringin óljós,“ sagði Friðjón. Á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ í vikunni var eitt umræðuefna samstarf sveitarfélaga á Suðurnesjum að ósk Kristins Jakobssonar, bæjarfulltrúa Framsóknarflokks. Flestir bæjarfulltrúar tóku til máls og nokkrir fóru ítarlega yfir kosti og galla samstarfsins. „Samstarfið er ekki að skila okkur neinum ávinningi. Þetta er mikill lýðræðishalli, okkur í óhag. Samstarfið í Dvalarheimilum aldraðra á Suðurnesjum er til dæmis sorglegt. Við þurfum að finna einhverja leið til að fara út úr þeim verkefnum þar sem við teljum okkur geta gert betur sjálf,“ sagði Gunnar Þórarinsson, oddviti Frjáls afls og vitnaði þar m.a. til málefna Garðvangs, fyrrverandi hjúkrunarheimilis sem var í Garði. Til stendur að auglýsa húsakynnin en heimamenn áréttuðu um daginn að samkvæmt skipulagi á opinber bygging að vera þar sem gamla hjúkrunarheimilið er. Það gerir því erfiðara fyrir í sölu á húsnæðinu sé áhugi t.d. fyrir því að breyta því í annan rekstur. Garðmenn hafa sagt að

gera eigi allt til þess að endurvekja rekstur hjúkrunarheimilisins en fulltrúar Reykjanesbæjar og fleiri segja að einingin sé alltof lítil og rekstur hennar vonlaus. „Við eigum ekki að sætta okkur við það að Garður haldi okkur í gíslingu út af Garðvangi. Það er ekki samstarf. Nú er komið að ögurstundu í samstarfinu og við þurfum að taka skrefið mjög fljótlega,“ sagði Friðjón. Í ræðum bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar kom fram að fagmennska væri döpur og oft væri verið að setja verkefni t.d. á skrifstofu sambandsins á meðan það væri hagstæðara að gera það annars staðar. Árni Sigfússon og Kristinn Jakobsson sögðu að réttast væri að fara í sameiningarumræðu. Sameinuð í einu sveitarfélagi yrði til sterkara sveitarfélag og undir þetta tóku fleiri bæjarfulltrúar. Þrátt fyrir erfiða fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar væru mörg atvinnutækifæri og mörg önnur tækifæri í farvatninu sem lægi betur fyrir eitt sveitarfélag að taka á. Alla vega ætti að vera dauðfæri fyrir Sandgerði og Garð að sameinast Reykjanesbæ. Á aðalfundi SSS í haust var hins vegar enginn sameiningartónn í Sandgerðingum og Garðmönnum en þeir hafa þó nýlega sagt að sameining Garðs og Sandgerðis mætti vel skoða.

Virka daga

10:00 – 19:00

Helgar

10:00 – 18:00

KASKO • IÐAVÖLLUM 14 • REYKJANESBÆ

Sjónvarp Víkurfrétta

Í KVÖLD KL. 21:30 Á ÍNN OG VF.IS

Ý N N A N & Súluverðlaunin 2015 Ingó og Ási sameinast í þakkargjörð

Kótilettur í Offanum

Notað & nýtt

FÍTON / SÍA

í Rauðakrossbúðinni

einföld reiknivél á ebox.is

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

VIKULEGUR MAGASÍNÞÁTTUR

ALLA FIMMTUDAGA KL. 21:30 Á ÍNN OG VF.IS

SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA - alltaf eitthvað nýtt í hverri viku!


2

fimmtudagur 19. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

STARFSFÓLK ÓSKAST Leitað er að fólki í afleysingarstörf á heimilum fatlaðs fólks. Um er að ræða hlutastarf í vaktavinnu við að veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs, heimilishald og samfélagslega þátttöku. Umsóknum skal skilað á www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig er að finna upplýsingar um hæfniskröfur og launakjör. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið en umsækjendur verða að hafa náð 20 ára aldri. Nánari upplýsingar veitir Erna María Jensdóttir forstöðumaður þjónustukjarna Suðurgötu sími 420 3260 eða með tölvupósti erna.m.jensdottir@reykjanesbaer.is

ÍBÚAFUNDUR Í KVÖLD Minnum á íbúafundinn í Stapa í kvöld kl. 20:00 vegna íbúakosningar um breytingar á deiliskipulagi í Helguvík sem hefst 24. nóvember nk. Á fundinum verður farið yfir ástæður kosningar og skipulag og kynnt verða sjónarmið bæjaryfirvalda og íbúa sem eru mótfallnir deiliskipulagsbreytingunni. Boðið verður upp á umræður og fyrirspurnir úr sal. Hægt er að kynna sér íbúakosninguna og sjónarmiðin á vefnum ibuakosning.is (Íslenska, English, Polski). Fundurinn verður sendur út beint á Hljóðbylgunni Fm 101.2.

RAFRÆN ÍBÚAKOSNING

-fréttir

pósturu vf@vf.is

Böðvar Jónsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks sat sinn 400. bæjarstjórnarfund í vikunni:

Fékk blóðugar skammir á fyrsta fundinum

B

öðvar Jónsson bæjarfulltr úi Sjálfstæ ðisf lok ks í Re y kjanesb æ s at sinn 400. bæjarstjórnarfund sl. þriðjudag. Böðvar sat sinn fyrsta bæjarstjórnarfund í byrjun árs 1994, þá 26 ára. „Böðvar hefur verið mikilvægur þessu sveitarfélagi í gegnum tíðina og það eru ekki mörg dæmi um að menn byrji svona ungir eins og hann gerði,“ sagði Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þegar hann afhenti honum bókagjöf frá bænum. „Ég held að eftirminnilegasti fundurinn sé einn af þeim fyrstu sem ég sat, þá sem varamaður á árinu 1994. Ég hafði verið kallaður inn á fundinn með skömmum fyrirvara og til umfjöllunar var málefni sem brann heitt á mönnum á þessum tíma og tengdist sameiningu sveitarfélaganna sem þá var nýlega gengin í gegn. Ég kom upp í pontu og sagðist því miður ekki hafa haft tækifæri til þess að kynna mér málið nægilega vel enda bara varamaður og boðaður til fundar með skömmum fyrirvara. Vinur minn og félagi, Ragnar Halldórsson, sem þá sat sem fulltrúi Alþýðuflokksins í bæjarstjórn lét mig aldeilis heyra það. Ég fékk blóðugar skammir frá honum og hann sagði þetta enga afsökun, ég sæti fund Bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og ætti einfaldlega að vera tilbúinn fyrir umræðuna. Eftir þetta hét ég sjálfum mér því að ég skyldi aldr-

Guðbrandur Einarsson forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar afhenti Böðvari bókagjöf í tilefni 400. fundarins. VF-myndir/pket.

ei aftur koma til fundar öðruvísi en fullkomlega undirbúinn. Þetta kjörtímabil og að sjálfsögðu ávallt eftir það lúslas ég því alltaf öll gögn fyrir bæjarstjórnarfundi, hvort sem ég hafði verið boðaður til fundarins eða ekki og var alltaf tilbúinn að taka þátt í umræðum hvort sem ég var kallaður inn með 2 daga fyrirvara eða 2 klukkustunda.“ Böðvar er með verulega yfirburði í fjölda bæjarstjórnarfunda. Enginn bæjarfulltrúi hefur setið fleiri bæjarstjórnarfundi en næsti bæjarfulltrúi á eftir honum er Björk Guðjónsdóttir með 328 fundi. All nokkrir hafa setið yfir 200 fundi. Bæjarstjórn heldur rúmlega 20 fundi á ári. Á þessum rúmlega tuttugu árum hefur Böðvar verið formaður bæjarráðs og forseti bæjarstjórnar.

Íbúakosning:

Kosning um breytingu á deiliskipulagi í Helguvík fer fram frá 24. nóvember kl. 02:00 til 4. desember kl. 02:00. Kjósendur þurfa að nota Íslykil frá Þjóðskrá Íslands eða rafræn skilríki frá Auðkenni. Boðið verður upp á aðgang að tölvum í Bókasafni Reykjanesbæjar og aðstoð á sjúkrahúsi og dvalarheimilum skv. auglýsingum sem þar hanga.

Mikilvægt að fólk segi hug sinn

Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar

„Íbúafundurinn er tækifæri til að skiptast á skoðunum og leita sátta í þessu mikilvæga máli.“

HLJÓMAHÖLL

AÐVENTUTÓNLEIKAR Aðventutónleikar Sönghóps Suðurnesja verða 3. desember kl.20:30 í Hljómahöll. Á tónleikunum koma fram einsöngvararnir Bjarni Geir Bjarnason, Emilía B. Óskarsdóttir, Jana María Guðmundsdóttir, Katrín Jóna Ólafsdóttir, Linda Pálína Sigurðardóttir og Mummi Hermanns. Hljóðfæraleikarar eru Ágúst Ingvason, ásláttur, Ingólfur Magnússon, bassi, Magnús Kjartansson, píanó og strengjasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leikur undir ásamt gestum. Stjórnandi kórsins er Magnús Kjartansson. Miðasala á hljomaholl.is

Í

búafundur um íbúakosningu um breytingu á deiliskipulagi í Helguvík vegna byggingar fyrirtækisins Thorsil á kísilveri fer fram í Stapa í kvöld, fimmtudagskvöld. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Dagný Alda Steinsdóttir, einn þeirra íbúa sem mótfallnir eru breytingu á deiliskipulagi í Helguvík, eru sammála um mikilvægi þess að allir sem láti sig málið varða mæti á fundinn og taki sömuleiðis þátt í íbúakosningu sem stendur yfir 24. nóvember til 4. desember næstkomandi. „Við íbúar sem erum á mótfallnir breytingum á deiliskipulagi í Helguvík vegna framkvæmda við kísilmálmver Thorsil teljum mikilvægt að allir íbúar bæjarins mæti á fundinn, hvort sem þeir eru á móti eða fylgjandi stóriðjuframkvæmdum í Helguvík. Íbúafundurinn er tækifæri til

að skiptast á skoðunum og leita sátta í þessu mikilvæga máli. Eftir framsögur bæjarstjórnar og framsögur íbúa sem andvígir eru deiliskipulaginu verður orðið laust fyrir spurningar úr sal. Með eða á móti, sameinumst á fundinn og tökum þátt í bjartri framtíð,“ segir Dagný Alda. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir mikilvægt að leiða málið til lykta á hvorn veginn sem er. „Þó svo að breytingin á deiliskipulaginu hafi þegar verið afgreidd er mikilvægt að fólk, sem er hlynnt breytingunni, taki líka þátt í kosningunni. Annars er hætta á að aðeins þeir sem eru mótfallnir skipulagsbreytingunni kjósi og þá mun óánægjan halda áfram. Við þurfum því að fá sem flesta til að taka þátt í kosningunni.“ Íbúafundurinn verður í Stapa í kvöld, fimmtudaginn 19. nóvember, og hefst klukkan 20:00.

„Í fljótu bragði er mér efst í huga eftir þennan tíma uppbygging, endurskipulagning og einsetning grunnskólanna sem var gríðarlega stórt verkefni á sínum tíma, sameining tónlistarskólanna, tenging þeirra við grunnskólann og bygging Hljómahallar sem gerði Tónlistarskóla Reykjanesbæjar að besta tónlistarskóla landsins, uppbygging íþróttalífs og aðstöðu, m.a. fyrsta yfirbyggða knattspyrnuhús landsins, efling menningarlífs sem er afar blómlegt hér í Reykjanesbæ og uppbygging aðstöðu fyrir aldraða, bæði þjónustumiðstöðvar og hjúkrunarrýma á Nesvöllum og Hlévangi svo að einhver verkefni séu nefnd.“ sagði Böðvar þegar Víkurfréttir spurðu hann hvað stæði upp úr eftir 400 fundi.

Ný flugbraut hefur talsverð áhrif – á skipulagt athafna-, verslunar- og þjónustusvæði XXBæjarstjórn Sandgerðis hefur staðfest samhljóða umsögn bæjarráðs Sandgerðis og húsnæðis-, skipulags- og byggingaráðs Sandgerðisbæjar um drög að Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2013-2030. Húsnæðis-, skipulags- og byggingaráð Sandgerðis bókaði á 483. fundi ráðsins eftirfarandi: „Ljóst er að verði aðalskipulag Keflavíkurflugvallar með þeim hætti sem kynnt er í drögunum mun það hafa talsverð áhrif á aðalskipulag Sandgerðisbæjar, þó fyrst og fremst ný NS [norður-suður] flugbraut sem kemur vestan við núverandi NS flugbraut. Hindrunarfletir þeirrar flugbrautar munu hafa talsverð áhrif á skipulagt athafna-, verslunar- og þjónustusvæði sem gengið hefur undir vinnuheitinu Ásbrú norður, ásamt hugsanlegum takmörkunum á uppbyggingarmöguleikum Rockville svæðisins. Ráðið gerir þó ekki athugasemdir við þau drög að aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar sem lögð eru fram, enda ljóst um nokkurt skeið að ný NS braut þurfi að koma inn í skipulag flugvallarins þegar horft er til langrar framtíðar. Ráðið leggur jafnframt áherslu á að áfram verði unnið í góðu samstarfi milli skipulagsyfirvalda á Keflavíkurflugvelli og Sandgerðisbæjar um þróun svæðisins.“


Langbest og Menu veitingar halda upp á

THANKSGIVING Alvöru þakkargjörðarhátíð fyrir alla fjölskylduna í Officeraklúbbnum á Ásbrú fimmtudaginn 26. nóvember

2ör.n 97–125ár0a 1.k100rkr..

B 6 ára og yngri fá frítt

Á matseðlinum er m.a.:

: R I N A T N A P A BORÐ

7 7 7 4 1 42 S .I T S E B G N A L @ T LANGBES

Kalkúnn í smjöri Hunangsgljáð skinka Savory Stuffing Alvöru Gravy Fullt af flottu meðlæti

FIMMTUDAGINN 26. NÓVEMBER

11:00 – 14:00 & 17:00 – 21:00 Hluti af hverjum seldum miða rennur í styrktarsjóð Sigvalda Arnars Lárussonar en hann hefur verið að safna peningum fyrir brýn málefni barna á Suðurnesjum.


markhönnun ehf

22% AFSLÁTTUR

ÍSLENSKUR KALKÚNN VERÐ ÁÐUR 1.549 KR/KG

1.363

KALKÚNAFYLLING VERÐ ÁÐUR 1.398 KR/KG

KR KG

1.090

KR KG

K.S. LAMBAFILLE M. FITU FROSIÐ VERÐ ÁÐUR 3.645 KR/KG

3.171

30% AFSLÁTTUR

KALKÚNABRINGUR ERLENDAR - FROSNAR

KR KG

GOÐI HAKKABUFF 870 G

VERÐ ÁÐUR 2.498 KR/KG

VERÐ ÁÐUR 1.376 KR/PK

1.749

1.087

KR KG

KR PK

40%

20%

AFSLÁTTUR

AFSLÁTTUR

SS LAMBABÓGUR 2 STK Í PK FROSINN VERÐ ÁÐUR 998 KR/KG

798

KR KG

www.nettó.is Mjódd · Salavegur · Búðakór· Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss

TEX-MEX KJÚKLINGAVÆNGIR VERÐ ÁÐUR 698 KR/KG

419

KR KG


25% AFSLÁTTUR

FERSK NAUTA PIPARSTEIK VERÐ ÁÐUR 4.511 KR/KG

3.383

KR KG

20%

20%

AFSLÁTTUR

SÆTAR KARTÖFLUR 453 G FROSNAR VERÐ ÁÐUR 479 KR/PK

398

30% AFSLÁTTUR

KR PK

AFSLÁTTUR

GRÆNN ASPAS 454 G

SELLERÍ STILKAR 250 G

559

229

VERÐ ÁÐUR 699 KR/PK

KR PK

KR PK

50% AFSLÁTTUR

DÁDÝRAVÖÐVAR NÝJA SJÁLAND

RAUÐKÁL - FERSKT

VERÐ ÁÐUR 4.666 KR/KG

3.266

VERÐ ÁÐUR 286 KR/PK

VERÐ ÁÐUR 278 KR/KG KR KG

139

KR KG

25% AFSLÁTTUR

ANDABRINGUR FRANSKAR

HEILL FROSINN KJÚKLINGUR

VERÐ ÁÐUR 3.498 KR/KG

VERÐ ÁÐUR 798 KR/KG

2.798

KR KG

599

Tilboðin gilda 19. - 25. nóv. Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana

KR KG


6

fimmtudagur 19. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR RITSTJÓRNARPISTILL PÁLL KETILSSON

vf.is

Framtíðarfólkið okkar er svo frábært ÚTGEFANDI: AFGREIÐSLA OG RITSTJÓRN: RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRÉTTASTJÓRI: BLAÐAMENN: AUGLÝSINGASTJÓRI: UMBROT OG HÖNNUN: AFGREIÐSLA: PRENTVINNSLA: UPPLAG: DREIFING: DAGLEG STAFRÆN ÚTGÁFA:

Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is og kylfingur.is

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001

Það var skemmtilegt og fróðlegt að fylgjast með krökkunum í Ungmennaráði Reykjanesbæjar á fundi með bæjarstjórn Reykjanesbæjar í vikunni. Sex ungmenni héldu ræður þar sem þau fjölluðu um hin ýmsu mál sem þau telja að megi fá meiri áherslu eða athygli bæjaryfirvalda. Bæjarfulltrúar sem eru á aldrinum 30 til 60 og yfir hlustuðu með athygli á unga fólkið ræða um það sem þyrfti að veita meiri athygli og styðja betur við, til dæmis þá sem lenda í andlegum veikindum en um 20 prósent ungs fólk stríðir við þunglyndi. Þau vilja miklu meiri fræðslu um mörg mál, til dæmis fjármál. „Við vitum ekkert um lán eða margt sem tengist bankastarfsemi. Hvernig á maður að spara? Hvað er lífeyrissjóður?,“ sögðu þau en þau vildu líka að þau fengju frí frá lærdómi um helgar. Þá væri meiri tími til að vera til dæmis með foreldrum og fjölskyldu. Fullorðna fólkið

fær frí frá vinnu um helgar, var sagt. Sem er í flestum tilfellum alveg rétt. Flokkun sorps var á listanum, að færa klukkuna á morgnana yfir veturinn, vöntun á námskeiðum eins og til dæmis sjálfsstyrkingarnámskeiðum og fræðslu um samfélagsmál og stjórnmál. Já, þau voru mögnuð og bæjarfulltrúar brostu oft þegar þau heyrðu krakkana halda glimrandi tölu uppi í pontu, eins og þau hafi aldrei gert neitt annað. Það vantaði ekki sjálfstraustið hjá þeim. Þau kvörtuðu sáran yfir því að strætó væri ekki að standa sig í bæjarfélaginu og það þótti koma á óvart en svo komu líka góð hrós um ýmis mál. Einn sagði: „Það er ekki hægt að kvarta yfir tónlistarskólanum því hann er frábær og svo er hann eins og félagsmiðstöð.“ Ekki er ólíklegt að einhver þessara krakka eigi eftir að sitja í þessum stólum í framtíðinni. Alla vega vonum við það því þau sýndu það þarna að framtíðin er björt á Suðurnesjum. Við þurfum ekki að kvíða því þegar þau taka við.

Anna Valdís Jónsdóttir veitir starfsemi Fjölskylduhjálpar Íslands í Reykjanesbæ forstöðu. Hér er hún með tvo jólasveina af jólamarkaðnum. VF-myndir: Hilmar Bragi

Suðurnesjamaður vikunnar

Á HEILAN BÚSTOFN Suðurnesjamaður vikunnar er Ríta Kristín Haraldsdóttir Prigge sem leikur Rauðhettu í uppfærslu Leikfélags Keflavíkur. Ríta er á þriðja ári í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og er á myndlistarbraut. Hún vinnur í afleysingum hjá Reykjavík Excursions, stundar líkamsrækt og er professional Netflix áhorfandi. Nafn: Ríta Kristín Haraldsdóttir Prigge. Aldur: 18 ára . Fjölskylda: Foreldrarnir heita Haraldur Valbergsson og Þóra Björg Einisdóttir. Bróðirinn Gustav Helgi Haraldsson er einnig í Leikfélagi Keflavíkur. Áhugamál: Leiklist, skíði, hestamennska, að versla, ferðast, vera með vinum og fjölskyldu. Leyndur hæfileiki: Ég er góð að teikna og er á myndlistarbraut.

Fyrsta bernskuminningin: Þegar ég var fjögurra ára í silkináttkjól af mömmu, með perlurnar hennar og í prinsessu hælaskóm að syngja með Grease. Uppáhalds nammi: Bland í poka. Uppáhalds bækur: Hunger games. Gæludýr: Á tvo hunda, hesta, kindur og hænur, semsagt heilan bústofn. Fallegasta náttúruperla á Suðurnesjum: Bergið.

Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjanesbæ:

BÚAST VIÐ 400 FJÖLSKYLDUM Í JÓLAÚTHLUTUN

F

jölskyldu hjálp Íslands í Reykjanesbæ fagnar fimm ára afmæli um þessar mundir. Þar starfa nú ellefu sjálfboðaliðar alla daga við að halda úti starfsemi samtakanna. Oft er unnið fram á kvöld og mikið að gera. Anna Valdís Jónsdóttir verkefnastjóri hjá Fjölskylduhjálp Íslands veitir starfstöðinni í Reykjanesbæ forstöðu. Hún segir í samtali við Víkurfréttir að 250 íslenskar fjölskyldur leiti á náðir þeirra í Reykjanesbæ í hverjum mánuði og hópurinn sé ekkert að minnka þrátt fyrir að dregið hafi verulega úr atvinnuleysi. Skjólstæðingarnir hér séu nú eldri borgarar og öryrkjar sem eigi erfitt með að ná endum saman. Þá er jafnframt mikið af ungum fjölskyldum og einstæðum mæðrum sem leita til Fjölskylduhjálpar í hverjum mánuði. Þá segir Anna Valdís að bæði flóttafólk og hælisleitendur leiti til-

svert til samtakanna í Reykjanesbæ og að eldri borgurum og öryrkjum fari fjölgandi. Anna Valdís segir Fjölskylduhjálp Íslands ekki fá neina styrki úr Reykjanesbæ og starfsemin sé rekin fyrir það fé sem safnast með

Það má fá skrautlegar jólapeysur á markaði Fjölskylduhjálparinnar.

rekstri markaðar með nýjar og notaðar vörur á Baldursgötu í Keflavík. Þá biðlar Anna Valdís til fólks sem getur lagt eitthvað til að hafa samband við Fjölskylduhjálpina. Framundan eru stórar úthlutanir,

m.a. jólaúthlutun 22. desember. Þar er reiknað með að 400 fjölskyldur leiti aðstoðar í Reykjanesbæ. Fjölskylduhjálp Íslands kaupir allan mat fyrir úthlutunina. Til að afla frekara fjár hefur verið settur upp jólamarkaður í aðstöðu Fjölskylduhjálpar Íslands við Baldursgötu þar sem seld er bæði ný og notuð jólavara og skrautmunir. Þá er einnig fatamarkaður á sama stað sem Anna Valdís segir ganga vel og fólk sé duglegt að sækja hann og versla. Þá biðlar Anna Valdís til fiskvinnslufyrirtækja á Suðurnesjum að þau gefi t.a.m. fisk í eina fiskmáltíð í mánuði. Í desember verður sett upp pakkatré við Nettó í Krossmóa þar sem fólk getur sett pakka undir tréð sem dreift verður til barna á Þorláksmessu. Er fólk hvatt til að setja gjafir undir tréð og merkja þær kyni og aldri.


Klúbbakvöld

% 0 4 25 25% r utum afsarlnái otgtfu l y gihl

afsláttur

af g

af jólaseríum og jólaskrauti

% 5 2 25%

afsláttu

r

af hrein

ttur afslá O málningu af GJÖC

25%

20%

afsláttur

25%

siefnum

af smáraftækjum

25%

afslátt

af spilu m leikfön og gum

ttur afslá höldum

ur

ttur afslá abílstólum

20%

af búsá

20%

af barn

r afslsuámtotgu perum af ljó

afsláttur

af slökkvit ækjum og reyksk ynjurum

20%

20%

afsláttur

tur afslávetrk færum

…OG VALDAR VÖRUR Á EINSTÖKU VERÐI!

sláttur

Verður heppnin með þér? Heppnir viðskiptavinir geta unnið 10.000 króna gjafakort frá BYKO.

25% af Jo afóðri gæladýr

40%

15%

Ljúfir tónar hljóma allt kvöldið.

af rafmagnshandverkfærum

ttur afssleá ra

af hand

Komið og gæðið ykkur á ljúffengum veitingum, vöfflur og kakó verða á boðstólnum fyrir gesti og gangandi.

afsláttur

25% af listmálaravörum

Fimmtudagur 35 D AG 19. nóvember TIL JóLAA!R kl. 18–21. í verslun BYKO Suðurnesjum

afsláttur

Plastparket, hnota, 6 mm, 3ja stafa, 193x1380 mm.

895

30%

kr./m2

0113453 Almennt verð: 1.295 kr./m2

afsláttur

42%

afsláttur

af

30%

afsláttur

KitchenAid 150 hrærivél, hvít.

75.995

kr.

RUSSELL HOBBS George Foreman heilsugrill.

65602057 Almennt verð: 89.895 kr.

byko.is

8.395

BOSCH AQT 37 háþrýstidæla, 130 bör. kr.

2083056 Almennt verð: 13.995 kr.

19.995 74810237 Almennt verð: 34.595 kr.

Við erum í jólaskapi á byko.is

kr.

BOSCH 500-RE borvél, 500W, 13 mm sjálfherðandi patróna.

6.925

kr.

74860500 Almennt verð: 9.895 kr.


8

fimmtudagur 19. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

BREYTTUR OPNUNARTÍMI SKEMMTISTAÐA

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

Reykjanesbær og lögregla í samstarfi við veitingamenn kynna nýjan opnunartíma frá og með 1. desember 2015. Veitingastöðum er ekki heimilt að hafa opið lengur en til 04.30. Ekki verði hleypt inn á staðinn eftir kl. 04:00 og að allir gestir hafi yfirgefið veitingastaðinn kl. 04:30. Þá skal áfengissölu lokið kl. 04:00. Einungis verður tekið við gildum persónuskilríkjum, þ.e. ökuskírteini eða vegabréfi. Samkomulagið í heild sinni má finna á vef Reykjanesbæjar.

FRÆÐSLUFUNDUR Í DUUS

Fræðslufundur Sögufélags Suðurnesja og Byggðasafns Reykjanesbæjar verður haldinn fimmtudaginn 19. nóvember kl. 17:30 í Bíósal, Duus safnahúsa. Kynntir verða vefir sem nýtast söguáhugafólki. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur.

DEILISKIPULAGSTILLAGA REYKJANESVITI OG NÁGRENNI

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst til kynningar eftirfarandi deiliskipulagstillaga. Deiliskipulagstillaga Reykjanesviti og nágrenni Deiliskipulagssvæðið er um 50. ha í nágrenni Reykjanesvita, í austur að sveitafélagsmörkum Grindavíkur og í vestur út í hraunin. Markmið með gerð deiliskipulagsins fyrir Reykjanesvita og nágrenni er að tryggt verði gott aðgengi og að komið verði fyrir móttöku og miðstöð ferðamennsku á svæðinu. Tillaga ásamt fylgigögnum verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 19. nóvember til 31. desember 2015. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 31.desember 2015. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ. Reykjanesbæ, 19. nóvember 2015. Skipulagsfulltrúi

Fjör á tíu ára afmæli Akurskóla N

emendur og starfsfólk Akurskóla hélt upp á tíu ára afmæli skólans 9. nóvember síðastliðinn. Afmælinu var fagnað vel á ýmsan hátt. Að morgni afmælisdagsins komu allir nemendur saman í íþróttahúsinu og sungu afmælissönginn. Kór skólans leiddi svo hópinn í söng þar sem sunginn var nýr skólasöngur Akurskóla. Höfundur söngsins, Guðmundur Hreinsson, fékk viðurkenningu fyrir sönginn. Þá fengu allir nemendur skúffuköku og mjólk í nestistíma. Í tilefni af afmælinu færði foreldrafélagið skólanum forláta bjöllu að gjöf. Þegar verið var að undirbúa gjöfina kom í ljós að skipsbjallan er úr Voninni KE 2 sem Gunnlaugur Karlsson, afi Sigurbjargar Róbertsdóttur, gerði út frá Keflavík í mörg ár. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri mætti í afmælið og vígði hval á lóð skólans. Hvalurinn hefur fengið nafnið Rauðhöfði. Rauðhöfða unnu nemendur skólans ásamt Helgu Láru Haraldsdóttur myndlistarkennara allt skólaárið í fyrra með aðstoð Sigmundar Friðrikssonar. Afmælisdeginum lauk svo á því að fulltrúar úr hverjum árgangi settu ýmis verk í tímahylki sem opnað verður eftir fjörutíu ár þegar skólinn fagnar fimmtíu ára afmæli sínu. Í samráði við kennara sína ákváðu nemendur að setja í tímahylkið upplýsingar um vinsælustu tónlistina í dag, fatnað, stjórnmál, leikara og fleira. Sumir nemenda settu myndir af sér í tímahylkið.

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri vígði Rauðhöfða.


t s m e r f g – fyrst o Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl

ódýr!

gu n ö g n i e r i d l i g Tilboðið i á Fitjum í Krónunn

t n æ r g ð a þ u ð af

H

s n i s f í l u t t ó j n og

r u t t á l s f a % 5 2 örum

Fræ og brauð

v e c n a l a af Grøn B

Pasta og hrísgrjón

Hreinlætisvörur Drykkir

Barnavörur

Snyrtivörur

Opnunartímar í Krónunni á Fitjum Reykjanesbæ

Opið virka daga 9-20 Opið um helgar 10-19


10

fimmtudagur 19. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Íslandsforeldrar óskast

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

Viltu gerast Íslandsforeldri Fjölskylduhjálpar Íslands með eingreiðslu eða mánaðarlegum greiðslum og aðstoða okkur við að úthluta hollari matvælum eins og fiski, ávöxtum, grænmeti, lýsi og fl. til barnafjölskyldna sem til okkar leita. Allar upplýsingar á heimasíðu okkar: fjolskylduhjalp.is

Jólaúthlutun Velferðasjóðs Suðurnesja

Opið verður fyrir umsóknir hjá Velferðasjóði Suðurnesja og Hjálparstarf kirkjunnar í Keflavíkurkirkju 24. - 26. nóvember,1. - 3. desember og 8. desember. Opnunartími er frá kl. 09:00-12:00. Þeir sem hafa fengið greitt inn á kort (blátt Arionbankakort) geta sótt um jólaaðstoðina rafrænt á www.help.is. Allir þeir sem eru undir viðmiðunarmörkum eiga rétt á jólaaðstoð hjón, einstkalingar og barnafólk. Athugið ekki verður tekið við umsóknum eftir 8.12. Afgreiðsla korta fer svo fram 17. desember 2015 milli kl. 09:00 og 12:00.

Jólalýsing í Kirkjugarði Njarðvíkur Byrjað verður að kveikja á jólaljósum í kirkjugarði Njarðvíkur laugardaginn 28. nóvember kl. 13:00 Aðrir opnunartímar eru sem hér segir: Þriðjudaga frá kl. 17:30 – 19:00 (1., 8., 15., og 22. des.) Fimmtudaga frá kl. 17:30 – 19:00 (3., 10., og 17 des.) Laugardaga frá 13:00 – 16:00 ( 28. nóv., 5., 12., og 19. des.) Síðasti opnunardagur er 22. desember.

ATVINNA JBB Tréverk ehf. leitar af framtíðarstarfsmanni í fullt starf hjá fyrirtækinu. Einnig vantar starfsmann í hlutastarf eftir verkefnastöðu. Íslenska skilyrði Umsóknir sendist á jbbtreverk@jbbtreverk.is Nánari upplýsingar eru veittar í síma 8975836 eftir kl. 16:00.

300 unglingar á Vina- og paraballi XVinaX og paraball Fjörheima var haldið í Stapa um síðustu helgi. Það er félagsmiðstöðin Fjörheimar í Reykjanesbæ sem heldur skemmtunina og býður ungmennum úr öðrum félagsmiðstöðvum á Suðurnesjum til skemmtunarinnar. Í ár mættu um 300 ungmenni úr 8. til 10. bekk grunnskóla. Fjölmörg skemmtiatriði voru í boði. Emmsjé Gauti mætti á svæðið og það gerði einnig söngkonan Glowie og dansarar frá Danskompaní. Heiðar Austmann þeytti skífum og það gerði einnig dj Alti Már. Me ð f y l g j a n d i my n d i r v o r u teknar þegar ungmennin mættu á skemmtunina um síðustu helgi. VF-myndir: Davíð Örn Óskarsson.


AFSLÁTTAR

KVÖLD

Í HÚSASMIÐJUNNI REYKJANESBÆ

FIMMTUDAGINN 19. NÓVEMBER KL. 18-21

20% afsláttur

Verslaðu jólaseríurnar, jólaskrautið og jólagjafirnar á lægra verði í Húsasmiðjunni Reykjanesbæ.

AF ÖLLUM

VÖRUM

25% 25% a afsláttur

AF ÖLLU JÓLASKRAUT I

fsláttur

AF JÓLALJÓS UM OG JÓLASERÍU M

Gildir ekki af tilboðsvörum og lægsta lága verði Húsasmiðjunnar. Afsláttur gildir ekki af vörum í timbursölu.


2.298 kr. kg

2.998 kr. kg

Kjarnafæði Hangiframpartur Kofareyktur, úrbeinaður

Kjarnafæði Hangilæri Kofareykt, úrbeinað

1.098 kr. kg

KEA Hangiframpartur Sagaður, með beini

KJÖT Á GÓÐU VERÐI Í BÓNUS

998 kr. kg

Bónus Grísagúllas Af nýslátruðu, ferskt

Meirani kfitajöt

1.398 kr. kg

598 kr. kg

Ali Grísabógur Ferskur

Bónus Ferskur Grísahryggur Fyrsta flokks pörusteik, óreykt

Min

1.498 kr. kg

1.698 kr. kg

Nautaveisla Nautgripahakk 12-16% fita, ferskt

Stjörnugrís Eðalbeikon Meira kjöt - Minni fita

2.198 kr. kg Bónus Kjúklingabringur 100% bringur, ferskar

698 kr. kg

1.895 kr. kg

Holta Kjúklingur Frosinn, heill

Kjörfugl Kjúklingabringur Ferskar

Verð í þessari auglýsingu gilda til og með 22. nóvember a.m.k.


2.998 kr. 2 kg

BÓNUS

VERÐ

Mackintosh Konfekt, 2 kg

SPARAÐU MEÐ BÓNUS!

20%

verðlækkun

316 kr. 500 g

20%

MS Smjör, 500 g Verð áður 395 kr.

verðlækkun

385

Lýsum upp skammdegið

kr. 500 ml

MS Rjómi, 500 ml Verð áður 482 kr.

375 kr. stk.

275 kr. stk.

259 kr. stk.

4.598 kr. pk.

Kubbakerti Hvítt, 18x7 cm

Kubbakerti Hvítt, 12x7 cm

Kubbakerti Hvítt, 12x6 cm

Tigi Hársnyrtivörur Sjampó og hárnæring, 2x750 ml

Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00


14

fimmtudagur 19. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-fréttir

pósturu vf@vf.is

Þurfa að greiða hærri laun til að halda starfsfólki F

ormaður VSFK segir það oft lendinguna hjá fyrirtækjum að flytja inn starfsfólk frá útlöndum þegar ekki sé vilji innan þeirra til að greiða þau laun sem Íslendingar sætta sig við. Nokkuð hefur verið í umræðunni að undanförnu að fyrirtæki þurfi að bregða á það ráð að fá starfsfólk frá útlöndum, svo mikið sé að gera framundan. Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, segir það oft lendinguna þegar fyrirtæki vilji ekki greiða þau laun sem Íslendingar sætta sig við. Framundan sé mikill vöxtur á Keflavíkurflugvelli og í Helguvík og brýnt að allar vinnufúsar hendur á svæðinu komist þangað í vinnu. „Erlent verkafólk kemur oft frá svæðum þar sem lífsbaráttan er erfið og launin lág. Hér á landi býðst þessu fólki ekkert annað en taxtinn og punktur. Stundum fær fólk jafnvel ekki taxtann. Á dögunum komst upp um vinnuveitanda sem var með 20 erlenda verkamenn í vinnu og greiddi þeim 60.000 krónur í mánaðalaun fyrir fulla vinnu. Einmitt af því að fólkið kemur frá láglaunalöndum hefur það ekkert að athuga við þessi laun. Það er þó alveg á hreinu að það á að fara eftir íslenskum kjarasamningum hér á Íslandi, greiða skatta og gjöld til lífeyrissjóða og stéttafélaga.“ Þegar upp kemst um slík tilvik fá atvinnurekendur aðvörun og tækifæri til að fara eftir settum reglum.

Að sögn Kristjáns er málunum svo fylgt fast eftir. „Það var töluvert um svona tilvik í ferðabransanum síðasta sumar. Yfirleitt eru þessir atvinnurekendur reynslulitlir og ekki í neinum samtökum, eins og Samtökum ferðaþjónustunnar og Samtökum atvinnulífsins.“ Bjart framundan „Ég er mjög bjartsýnn. Það eru fleiri komnir með fulla vinnu og margir hafa kost á yfirvinnu,“ segir Kristján um horfur í atvinnumálum á Suðurnesjum. Hann segir allar tölur sýna það sama; að bjart sé framundan. „Launin eru aðeins

Sveitarfélögin hafa ekki úr miklu að moða og því er ekki hægt að fara í verkefni til að útvega vinnu við hæfi allra

byrjuð að þrýstast upp enda er það svar vinnumarkaðarins við þenslu. Atvinnurekendur eru að átta sig á því að þeir þurfa að borga fólkinu sínu betri laun og meira en blásvartan taxtann, ætli þeir að halda því. Núna heyri ég oft dæmi um 20 til 30 prósent hærri laun en taxti segir til um. Þetta er svo sem ekkert nýtt, heldur það sem hefur alltaf gerst í þenslu á Íslandi.“ Kristján hefur verið formaður VSFK í 24 ár og segir hann alla tíð hafa verið töluvert atvinnuleysi á svæðinu. Þegar fiskvinnsla hafði meira vægi hafi árstíðabundnar sveiflur haft töluverð áhrif. Þá var lítið að gera í desember og janúar. Nú er hráefnisöflun í fiskvinnslu jafnari og því minni sveiflur. Í dag eru um hundrað félagar í VSFK án atvinnu og hafa þeir aldrei verið svo fáir síðan Kristján hóf störf hjá félaginu. Hann segir marga sem áður voru án vinnu hafa fengið störf á flugvellinum, enda sé hann stóriðja Suðurnesja. „Svo hefur sprottið upp hér fjöldinn allur af bílaleigum og gistihúsum og margir okkar félagsmanna hafa fengið vinnu tengda ferðaiðnaði.“ Um ástæður þess að þrátt fyrir gott ástand á vinnumarkaði séu um hundrað manns í félaginu án atvinnu segir hann þær af ýmsum toga, meðal annars langvarandi félagsleg vandamál hjá hluta hópsins. „Sveitarfélögin hafa ekki úr miklu að moða og því er ekki hægt að fara í verkefni til að útvega vinnu

Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis.

við hæfi allra.“ Hann segir alvarlega fjárhagsstöðu sumra sveitarfélaganna á Suðurnesjum einnig hafa þau áhrif að fólk veigri sér við að flytja hingað, þrátt fyrir góðar horfum í atvinnumálum. „Því eru margir sem kjósa að sækja vinnu hingað og keyra Reykjanesbrautina daglega en eru hikandi við að flytja. Það þarf að koma sveitarfélögunum á beinu brautina og við íbúarnir þurfum líka að vera dugleg að tala á jákvæðan hátt um svæðið okkar því hérna er vænlegt að búa.“ Kristján segir að á árum áður hafi hlutfall hlutastarfa verið það hæsta á landinu í Reykjanesbæ og því sé ánægjulegt að fleiri hafi nú kost á fullu starfi. „Það eru sveitarfélögin sem hafa flesta hlutastarfsmenn. Það er mjög erfitt að draga fram lífið á hlutastarfi og hafa ekkert annað til viðbótar. Hér áður fyrr var mikið um að fólk væri í 70 til 80

Vilja vera fyrsta stopp fyrirtækja í leit að starfsfólki Þ

rátt fyrir mikinn uppgang í atvinnulífi á Suðurnesjum og fréttir þess efnis að erfitt sé að manna fyrirtæki eru nú 365 manns á atvinnuleysisskrá á svæðinu. Meirihluti fólks án atvinnu á Suðurnesjum er fólk á aldrinum 21 til 30 ára, eða um 30 prósent. Þá eru konur um 55 prósent fólks án atvinnu. Íris Guðmundsdóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum, segir ýmsar ástæður geta legið að baki því að fólk finni ekki vinnu hæfi. „Við höfum fundið fyrir því að ungar konur eiga erfiðara en aðrir hópar með að fá vinnu. Oft eiga konur á þessum aldri ung börn. Hér á Suðurnesjum er mikið um vaktavinnu, til dæmis tólf tíma vaktir á Keflavíkurflugvelli sem byrja um klukkan 5:30. Það er hópur fólks sem vill vinna en er ekki í aðstöðu til að taka þannig störfum og þá eru kannski ekki mörg önnur störf í boði. Leikskólar eru opnir á hefðbundnum skrifstofutímum og það hafa ekki allar fjölskyldur bakland til að brúa það bil sem myndast þegar fólk vinnur vaktavinnu.“ Íris kveðst vona að í þeim uppgangi sem nú á sér stað muni fyrirtæki auka sveigjanleika í vinnutíma til að koma til móts við þann hóp sem ekki getur unnið langar vaktir. „Við

viljum að fólk héðan af svæðinu fari í þessi störf.“

Krafa um hreint sakarvottorð Mörg störf á Suðurnesjum eru tengd flugvellinum og segir Íris það hamla þeim hópi fólks sem ekki er með hreint sakarvottorð því ekki sé hægt að fá vinnu þar nema sýna fram á slíkt. Mikil hreyfing er á atvinnuleysisskránni á Suðurnesjum og hefur um 25 prósent atvinnuleitenda nýtt tvo mánuði eða minna af bótarétti sínum. Stærsti hópurinn stoppar ekki lengi við en þó er alltaf hópur sem kemur aftur og aftur inn á skrána. Meðal atvinnuleitenda á Suðurnesjum eru um 32 prósent erlendir ríkisborgarar. Til samanburðar er hlutfallið um 20 prósent á landinu öllu. Af þessum erlendu ríkisborgurum eru 77 prósent með pólskan ríkisborgararétt. Á landsvísu er hlutfallið 59 prósent. Að sögn Írisar eru margir í hópnum sem hvorki tala íslensku né ensku og því geti verið snúið að finna vinnu við hæfi fyrir þá einstaklinga. 200 færri á atvinnuleysisskrá nú en fyrir ári Þegar atvinnuleysi á Suðurnesjum var hvað mest árið 2010 var það 13,1 prósent en var þá 8,1 prósent

á landsvísu. Nú er atvinnuleysi á svæðinu 3,1 prósent, miðað við 2,6 prósent á landsvísu. „Við erum að nálgast landsmeðaltal sem er mjög ánægjulegt. Í langan tíma voru Suðurnesin 1,5 prósent yfir landsmeðaltali en eru núna aðeins hálfu prósenti yfir því.“ Íris segir horfur í atvinnumálum hafa batnað mikið á undanförnum tólf mánuðum því að í október í fyrra var atvinnuleysi á Suðurnesjum 4,7 prósent og atvinnuleysisskráin taldi 562 manns. Því er ljóst að fækkunin á einu ári er um tvö hundruð manns. „Það þarf að byrja einhvers staðar“ Í umræðunni um fjölgun starfa á Suðurnesjum heyrast stundum þær raddir að erfitt sé að finna fólk til að ráða í störf. Sum fyrirtækjanna íhuga að flytja inn fólk frá útlöndum og önnur að leita eftir fólki af höfuðborgarsvæðinu. Íris segir koma fyrir að fyrirtæki sem leiti út fyrir svæðið eftir starfsfólki hafi ekki leitað til Vinnumálastofnunar eftir fólki. „Það er alltaf leiðinlegt þegar við heyrum af því. Við viljum vera fyrsta stopp atvinnurekenda þegar ráða þarf fólk því við bæði getum og viljum hjálpa.“ Vinnumálastofnun hefur eflt vinnumiðlun og fer fulltrúi stofnunarinnar í heimsókn til fyrirtækja í hverri viku til að kynna

3

prósent vinnu, til dæmis hjá hinu opinbera. Það er sá hópur sem ég finn mest til með. Þetta fólk er ekki aðeins á lægstu laununum, heldur líka í hlutastarfi og reynir að draga fram lífið á þeim launum.“ Ekki slæmt að vinna í fiski Að mati Kristjáns náðust góðir samningar fyrir fiskverkafólk sem tóku gildi í maí síðastliðnum. Hann segir afkomu í fiski almennt góða og því hafi fyrirtækin borð fyrir báru til að gera vel við starfsfólk sitt. „Gamla mýtan um að fólk sem fari ekki í skóla endi í fiski og að það sé slæmt, á ekki lengur við. Það er alveg ágætt að vinna í fiski. Til dæmis bað afastrákurinn minn mig í vor að hjálpa sér að finna vinnu í fiski. Hann grætti mig næstum því, ég var svo glaður að finna loksins einhvern sem vill vinna í fiski,“ segir Kristján að lokum.

Íris Guðmundsdóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum. VF-mynd/dagnyhulda

þau vinnumarkaðsúrræði sem í boði eru hjá Vinnumálastofnun og til að kanna hvort fyrirtækin hafi möguleika á að ráða til sín fleira fólk. „Við bjóðum fyrirtækjum meðal annars upp á úrræði sem felur í sér að ráðinn er starfsmaður af atvinnuleysisskrá með styrk frá Vinnumálastofnun í þrjá til sex mánuði. Um sjötíu prósent fólks af atvinnuleysisskrá sem hefur nýtt sér þetta úrræði hefur ekki komið aftur á skrá. Þá er fólk annað hvort ráðið áfram hjá fyrirtækinu þegar úrræðinu er lokið eða það finnur annað starf. Þetta er virkilega gott tækifæri, sérstaklega fyrir unga atvinnuleitendur sem ekki eru með mikla starfsreynslu. Reynslan fer á ferilskrána og fólk getur fengið meðmæli fyrir næsta starf. Við hvetjum fólk alltaf til að taka þessu úrræði þó svo að það fái kannski ekki draumastarfið strax. Það þarf alltaf að byrja einhvers staðar.“

Við viljum vera fyrsta stopp atvinnurekenda þegar ráða þarf fólk því við bæði getum og viljum hjálpa

Aus

Skó

Lau

Hal


30%

AFSLÁTTUR AFSLÁTTUR AFSLÁTTUR

!

AF ÖLLUM FERÐATÖSKUM BROT AF U N I L A V R Ú

2 kg.

Ferðataska Artic, 4 hjól Ferðataska IT 4 hjól, 71 cm, 2 kg. Ferðataska Derby S, 2 hjól

5%

afsláttur af ÖLLUM VÖRUM einnig tilboðum

Austurstræti 18

Álfabakka 14b, Mjódd

Hafnarfirði - Strandgötu 31

Ísafirði - Hafnarstræti 2

Skólavörðustíg 11

Kringlunni norður

Keflavík - Sólvallagötu 2

Vestmannaeyjum - Bárustíg 2

Laugavegi 77

Kringlunni suður

Akureyri - Hafnarstræti 91-93

Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Hallarmúla 4

Smáralind

Akranesi - Dalbraut 1

540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is

Vöruúrval mismunandi eftir verslunum. Vildartilboð gildir 19. nóvember, til og með 21. nóvember. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl.


16

fimmtudagur 19. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-aðsent

pósturu vf@vf.is

Atvinnuuppbygging er forsenda góðs mannlífs Í

sveitarstjórnarkosningunum í Reykjanesbæ í fyrra greiddu kjósendur m.a. atkvæði um atvinnustefnu bæjarfélagsins. Allir flokkar, sem fengu fulltrúa í bæjarstjórn, lögðu áherslu á áframhaldandi uppbyggingu í Helguvík þar sem markmiðið er fjölbreytt atvinnutækifæri til vel launaðra starfa. Þessar áherslur voru tíundaðar í málefnasamningi sem núverandi meirihluti bæjarstjórnar gerði með sér. Jafnframt var lögð áhersla á að gæta sérstaklega að umhverfisáhrifum og að verkefnin yrðu í samræmi

við lög og reglur um skipulag og umhverfisáhrif. Það hefur verið stefnan í mörg ár að skjóta fleiri stoðum undir atvinnulífið hér sem annars staðar. Sérstaklega hefur verið lögð áhersla á að skapa hér störf sem krefjast tækni- og háskólamenntunar. Störf sem gefa góð laun bæði fyrir konur og karla. Það liggur í augum uppi að allt frá því að varnarliðið hvarf á brott, hefur straumur fólks legið til Norðurlanda í atvinnuleit. Flest er þetta fólk vel menntað og eftirsótt á þessum slóðum, í margs konar

Okkar elskulegi vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,

Þórður Jónsson,

Faxabraut 3 Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þann 1. nóvember 2015. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Elín Ingólfsdóttir, Helena Birna Þórðardóttir, Kristín Þórðardóttir, Ingvar Þorsteinn Þórðarson, Linda Björk Þórðardóttir, afa og langafabörn.

Þórarinn G. Pétursson, Ágústa Sigmarsdóttir, Gretar B Magnússon,

vinnu við þess hæfi. Þetta hefur gerst af því að hér er ekki í boði framtíðaratvinna við hæfi þessa fólks, hvorki hvað varðar menntunarkröfur né laun. Smám saman hefur þetta fólk flust burt af landinu með fjölskyldur sínar. Með ofangreindum verkefnum er leitast við að tryggja sem best hagsmuni heildarinnar, fjölskyldunnar og heimilisins. Með öflugu átaki í atvinnumálum er stefnt að því að skapa hér gott og stöðugt atvinnulíf. Það er forsenda þeirrar velmegunar sem stefnt er að, þar með að íbúðarverð hækki með aukinni eftirspurn. Bæjarstjórn, sem var kosin af íbúunum til fjögurra ára árið 2014, hefur fylgt þessari stefnu dyggilega eftir í samræmi við lýðræðislegt umboð frá íbúum. Látið hefur verið að því liggja að íbúar hafi ekki getað verið með í ráðum við ákvörðun þeirra verkefna sem eru á döfinni. Það er einfaldlega rangt. Það á ekki við um álverið þar sem umhverfisáhrif voru kynnt á sínum tíma og íbúum gefin tækifæri til að gera athugasemdir. Sama á við um kísilver United Silicon og Thorsil þar sem

farið var yfir allar athugasemdir í umhverfisráði Reykjanesbæjar og þeim svarað án þess að gerðar væru athugasemdir við þau svör. Umhverfisráð bæjarins og síðar bæjarstjórn samþykktu síðan breytt skipulag þar sem lögð var áhersla á að fulltrúar Reykjanesbæjar hefðu aðkomu að eftirliti með umhverfisáhrifum þessara þriggja fyrirtækja. Nú hafa undirrituð að sjálfsögðu ekkert við það að athuga að íbúar láti í ljós skoðun sína á öllum athöfnum og samþykktum bæjarstjórnar. Það er nauðsynlegt að fá fram álit bæjarbúa á gerðum bæjarstjórnar á hverjum tíma, hvort sem manni líkar betur eða

-fréttir Hjartkær eignimaður minn, faðir, sonur, bróðir og afi, Z głębokim żalem zawiadamiamy, że 10.11.2015 przeżywszy lat 55 odszedł od nas najukochańszy mąż, ojciec, dziadek, brat.

Ś.P JAN SOBCZAK Uroczystość pogrzebowa rozpoczyna się 24.11 o godz.12:00. Msza żałobna o godzinie 13:00 w kościele pod wezwaniem Jana Pawła II przy ul. Keilisbraut 775, Ásbrú

Pogrążona w smutku rodzina.

O

Lýsing á eign og því sem henni fylgir Ástand íbúðar og staðsetning Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni

Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með. Öllum tilboðum verður svarað.

VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS

pósturu vf@vf.is

– sem miðar að fækkun brota og öflugri forvörnum

pnunartími veitinga- og skemmtistaða í Reykjanesbæ verður styttur frá og með 1. desember nk. og reglur um persónuskilríki hertar. Þá skulu gestir hafa yfirgefið staðinn kl. 04.30. Ekki verður heimilt að hleypa inn á staðinn eftir kl. 04:00 né selja áfengi. Einungis verður tekið við gildum persónu-

VR óskar eftir að leigja vönduð sumarhús eða orlofsíbúðir til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi inn upplýsingar á vr@vr.is fyrir 1. desember 2015.

-

Gunnar Þórarinsson og Elín Rós Bjarnadóttir, Davíð Páll Viðarsson og Alexander Ragnarsson, bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar Frjáls afls.

Samkomulag við veitingamenn

VR óskar eftir orlofshúsum Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:

verr. Sú lýðræðisvakning sem virðist vera fyrir hendi er af hinu góða og það eru komandi íbúakosningar líka, ef langflestir bæjarbúar með kosningarétt taka þátt í þeim. Þannig næst fram sýn á það hver vilji íbúanna er í þessum efnum. Engu að síður hefur bæjarstjórn einungis svigrúm til að taka tillit til niðurstaðna slíkra kosninga ef hún hefur ekki samþykkt það sem kosið er um.

skilríkjum, þ.e. ökuskírteini eða vegabréfi. Stefnt er að frekari styttingu opnunartíma að ári. Þetta kemur fram í nýju samkomulagi sem Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri á Suðurnesjum undirrituðu nýverið ásamt veitinga- og skemmtistaðaeigendum í Reykjanesbæ. Markmiðið með samkomulaginu er m.a. að draga úr og helst útiloka að ungmenni undir lögaldri sæki skemmtistaði í Reykjanesbæ en ekki síður að fækka ofbeldisog fíkniefnabrotum. Þó nokkrar ábendingar hafa borist til lögreglu og bæjaryfirvalda á undanförnum árum um ungmenni undir lögaldri á skemmtistöðum bæjarins. Útideild Reykjanesbæjar verður á vaktinni ásamt lögreglu flestar helgar og ábendingar til Útideildar

eru vel þegnar á utideild@reykjanesbaer.is. Þá miðar samkomulagið að því að bæta umhverfi og umgengni í kringum skemmtistaði í sveitarfélaginu. Með samkomulaginu verða reglur hertar varðandi framvísun skírteina á skemmtistöðum og einungis verður tekið við gildum skírteinum á borð við ökuskírteini eða vegabréf. Rétt er að vekja sérstaka athygli á að skilríkjafals er alvarlegt lögbrot og er meðhöndlað sem slíkt. Bæjarstjórn Reykjanesbær ákvað á fundi sínum þann 6. október 2015 sl. að stefnt skuli að styttingu á opnunartíma veitingastaða í Reykjanesbæ. Þann 1. desember 2016 munu skemmtistaðir loka kl. 04:00. Þá verður ekki hleypt inn á staðinn eftir kl. 03:30 né selt áfengi eftir þann tíma.

Ný tækifæri við Eyjabakka í Grindavík

H

afnarstjórn Grindavíkur segir aukin tækifæri vera á hafnarsvæðinu við Eyjabakka í Grindavík. Hafnarstjórnin tók á síðasta fundi fyrir endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur fyrir árin 2010 til 2030. Eftir að frystitogarar Þorbjarnar hf. færðu sig yfir á Suðurgarð í vesturhöfninni skapast tækifæri að nýta Eyjabakka og land þar við undir hafsækna starfssemi s.s. uppskipun og geymslu á salti og öðrum heilförmum, segir í gögnum hafnarstjórnar Grindavíkur.

Þurfa að gæta aðhalds í hvívetna XXLjóst er að nauðsynlegt verður að gæta aðhalds í hvívetna en þó eru tækifæri til flestra hefðbundinna verkefna á sviði safna og menningarmála í Reykjanesbæ á næsta ári. Fjárhagsáætlun var kynnt í menningarráði á dögunum og fór Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, yfir fjárhagsramma safna og menningarmála. Forstöðumenn bókasafns, byggðasafns, listasafns og framkvæmdastjóri Hljómahallar kynntu sínar áætlanir sem og menningarfulltrúi Reykjanesbæjar sem kynnti sína áætlun. Menningarráð Reykjanesbæjar samþykkti allar áætlanirnar.


17

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 19. nóvember 2015

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

Á myndinni eru þær Kvenfélagskonur sem voru heiðraðar um helgina: Bára Ágústsdóttir, Birna Bjarnardóttir, Guðveig Sigurðardóttir, Hallbera Árný Ágústsdóttir, Hildur Sigurðardóttir, Jóhanna Garðarsdóttir, Kolbrún Einarsdóttir, Kristín Thorstensen, Margrét Brynjólfsdóttir, Pálmey Jakobsdóttir, Ragna Fossádal, Rannvá Szmiedowicz, Rún Pétursdóttir, Sæbjörg María Vilmundsdóttir og Vilborg Guðjónsdóttir. Fengu þær allar gullmerki félagsins sem hannað var af Evelyn Adólfsdóttur

Kvennamessa Kvenfélags Grindavíkur:

FIMMTÁN FÉLAGSKONUR HEIÐRAÐAR

F

immtán félagskonur voru heiðraðar fyrir vel unnin störf í þágu Kvenfélags Grindavíkur á sérstakri Kvennamessu sem fram fór sunnudaginn 15. nóvember 2015. Séra Elínborg Gísladóttir sóknarprestur þjónaði fyrir altari og heiðursfélagar Kvenfélagsins, þær Jóhanna Sigurðardóttir og Elín P Alexandersdóttir, lásu ritningartexta. Ræðumaður var Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra. Um einsöng sá Rósalind Gísladóttir. Kór Grindavíkurkirkju söng undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar. Að lokinni messu var boðið upp á kaffi sem kvenfélagskonur höfðu töfruð fram eins og þeim einum lagið. Kaffið var selt var gegn vægu gjaldi og rann allur ágóði af kaffinu í líknarsjóð kirkjunnar. Kvenfélagið vill koma á framfæri þakklæti til allra sem hafa fyrr og síðar veitt félaginu lið. Meðfylgjandi myndir tóku Eyjólfur Vilbergsson og Eiríkur Dagbjartsson.

Á myndinni eru heiðursfélagar Kvenfélags Grindavíkur Jóhanna Sigurðardóttir, Vigdís Magnúsdóttir, Elín P Alexandersdóttir, Birna Óladóttir og Petra Stefánsdóttir.

Jólamarkaður Víkingaheima Víkingaheimar í Reykjanesbæ verða með jólamarkað laugardaginn 5. desember. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt vinsamlegast hafið samband á info@vikingworld.is eða í síma 422-2000 fyrir 27. nóvember.

Starfsfólk Víkingaheima

Fimmtán félagskonur voru heiðraðar fyrir vel unnin störf í þágu félagsins um heiðrunina sá Sólveig Ólafsdóttir formaður Kvenfélagsins.

HEILSUFÆÐAN SÚKKULAÐI

Ræðumaður var Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra.

- ALLT SEM ÞÚ ÞARFT AÐ VITA!

Skráning í

s. 899 8069 / asdis@grasalaeknir.is.

www.sapa.is Allar bestu hárvörurnar á einum stað

Hringdu og fáðu faglega ráðgjöf

Pantaðu í netverslun okkar og fáðu sent heim

Úrval af fallegum jólagjöfum

Laugavegi 61

101 Reykjavík

s. 511-1141

Lærðu af hverju þú ættir að borða dökkt súkkulaði fyrir heilsuna þína... - Ofurfæðan súkkulaði og heilsueflandi áhrif þess á líkamann. - Vísindin á bakvið kakóbaunina, næringarefni og virk efni. - Áhrif súkkulaðis á geðið, þyngdarstjórnun, hjarta-og æðakerfi. o.fl. - Sætuefni og hráefni til að nota í súkkulaðigerð og heilsubakstur - Uppáhalds súkkulaðiuppskriftirnar mínar - Konfekt, kökur og fleira gómsætt. - Ókeypis smakk á lífrænu hágæða súkkulaði.

Námskeiðið er haldið þriðjudaginn 24.nóv. kl. 19:30 - 21:00 á Heilsuhótelinu Lindarbraut 634 Ásbrú. Þátttakendur fá námsgögn með súkkulaðiuppskriftum. Tilvalið fyrir jólabaksturinn!


18

fimmtudagur 19. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal

pósturu dagny@vf.is Rannveig Lilja með verðlaunin í Duus-húsum.

SAGA Á HVERJUM HÓL OG ÞÚFU

Rannveig Lilja Garðarsdóttir leiðsögumaður og Súluverðlaunahafi segist hafa fallið kylliflöt fyrir Reykjanesskaganum

R

annveig Lilja Garðarsdóttir l ei ð s ö g u m a ð u r h l aut á dögunum Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar fyrir framlag sitt til menningar og sögu bæjarfélagsins en hún er þekkt fyrir gönguferðir sínar um Reykjanesskagann þar sem hún hefur miðlað fróðleik til íbúa. Rannveig hefur frá árinu 2000 gengið um Reykjanesskagann með 9.151 göngumanni og kynnt hann fyrir 5.176 rútufarþegum, samtals gerir það 14.327 manns sem eru fróðari um svæðið fyrir tilstilli Rannveigar „Það vantar aðeins 173 ferðalanga til að jafngilda því að ég sé búin að ganga og leiðsegja öllum íbúum Reykjanesbæjar, “ segir Rannveig og bætir við hlægjandi „ég næ þessum 173 í vor.“ Rannveig segir verðlaunin vera mikla hvatningu en hún hafi ávallt verið knúin áfram atf því sem henni finnst skemmtilegt og áhugavert. Áhugann á náttúrunni má rekja til uppvaxtaráranna og segir Rannveig að foreldrar sínir hafi að mörgu leyti verið frumkvöðlar. „Þau voru með fyrstu Íslendingum til að ferðast um hálendi Íslands sér til yndisauka og í þá daga tíðkaðist það að við krakkarnir vorum alltaf tekin með í allar hálendisferðir og búum við að því að hafa alist upp með náttúruna og söguna sem leikvang“. Ævintýri á Reykjanesi Reykjanesgönguferðirnar eru ævintýri sem að hennar sögn hófst árið 2000 þegar hún ákvað ásamt nokkrum vinum að ganga meðfram strönd Reykjanesskagans frá Straumsvík til Grindavíkur á einu sumri. Þá hafði Rannveig heimsótt flesta staði á Íslandi en var enn ekki búin að uppgötva náttúruperluna Reykjanesskagann sem hún féll svo kylliflöt fyrir. „Við ákváðum að hittast alltaf á sama stað á sama tíma einu sinni í viku og eftir útreikning sáum við fram á að geta staðið við þessi áform með því að ganga um 3 klukkustundir á kvöldi. Það hófst og um haustið hafði hópurinn tvöfaldast svo það var ákveðið að halda áfram.“ Rannveig tók að sér að lesa sér til fyrir ferðirnar til að miðla til hinna og uppgötvaði að eigin sögn söguna allstaðar og jarðfræðin lifnaði við. „Mig langaði alltaf til að gera eitthvað meira við þetta verkefni og eftir nám í Ferðamálaskóla Kópavogs ákvað ég að fara í Leiðsöguskóla Íslands m.a. til að geta tekið skrefið áfram með þetta gönguverkefni. Þegar Leiðsöguskólanum var lokið fór ég fljótlega að leita

fyrir mér með styrktaraðila að göngum og þáði Hitaveita Suðurnesja, nú HS Veitur og HS Orka, boðið og hafa þeir styrkt mig æ síðan ásamt Bláa lóninu en það samstarf hefur gengið mjög vel. Síðustu tvö ár hefur Reykjanes Geopark jafnframt komið inn í verkefnið.“ Harðir göngugarpar og aðrir sem vilja skoða blómin Rannveig fer að meðaltali um 10 ferðir á hverju sumri um Reykjanesskagann og getur gestafjöldinn verið frá 15 og upp í 150. „Ég reyni að hafa ferðirnar þannig að sem flestir geti notið þeirra. Þær eru með mismunandi erfiðleikastigi og henta bæði fólki með börn, eldra fólki og svo hörðustu göngugörpunum. Þú gengur aldrei hraðar en síðasti maður og það er líka mikivægt að hafa gaman af stundinni og samverunni. Þá hef ég verið svo heppin að hafa félaga úr björgunarsveitinni Suðurnes með mér og það hjálpar mér mikið að halda utan um hópinn. Svo er maður búinn að læra það eftir 15 ár hvað maður á að ganga hratt,” segir Rannveig og hlær. „Það er svo misjafnt fólk í hópnum, einn vill fá hreyfingu og útiveru en svo vill næsti maður við hliðina á honum skoða blómin. Það er svoldið langt á milli og maður þarf að samræma þetta. En það er alltaf hægt.” Eins og að koma inn á listasafn Rannveig segir Reykjanesskagann einstakan og sérlega gefandi að starfa þar sem leiðsögumaður. „Það er gaman hvað svæðið kemur á óvart og svo er sagan hér í hverri þúfu og hól. Það er misjafnt hvernig við mælum náttúrufegurð, sumir gera það eftir grasi og trjám og aðrir eftir hrauni og sögu. Reykjanesið er ótrúlega fjölbreytt og mér finnst gaman að ganga um hraunið og velta fyrir mér hvenær það rann, hvaðan það kom og á hversu löngum tíma. Mér finnst stundum eins og ég sé að ganga inn á listasafn og maður tímir ekki að stíga niður fæti ef maður skyldi eyðileggja eitthvað. Fólki finnst merkilegt að sjá á gönguleiðum dældir í hrauninu eftir þúsundir manna á hestum í hundruði ára. Hér býr mikil saga og hún kemur sífellt á óvart.” Rannveig segir að bæta þurfi aðstöðu fyrir ferðamenn á Reykjanesi og leggur þar áherslu á að gestum sé bent á ákveðna staði og þeir kynntir vel. Hraunið sé viðkvæmt og geti jafnvel verið hættulegt. Þá séu möguleikarnir margir.

„Það er hægt að keyra þægilegan 50km hring um skagann á einum

Rannveig Lilja með nánustu fjölskyldu sinni í Duus-húsum. VF-myndir/pket. Myndlistarsýningin „Kvennaveldið: Konur og kynvitund“ er mögnuð en þar sýna 12 listakonur verk sín.

Menningarverðlaun, sýning og Ljósanæturþakkir XXMenningarverðlaunin voru veitt í Duus safnahúsum sl. föstudagskvöld og á sama tíma var sýningin „Kvennaveldið: Konur og kynvitund“ opnuð í húsinu en þar sýna 12 listakonur verk sín. Súlan er veitt þeim sem stutt hafa vel við menningarlíf sveitarfélagsins og var þetta í nítjánda sinn sem verðlaunin eru afhent. Auk Rannveigar voru eftirtaldir aðilar tilnefndir: Arnór Vilbergsson, Brynjar Leifsson, Guðmundur Haukur Þórðarson, Guðmundur Rúnar Lúðvíksson, Rannveig Lilja Garðarsdóttir, Valdimar Guðmundsson, Gunnheiður Kjartansdóttir, Freydís Kneif Kolbeinsdóttir og Íris Dröfn Halldórsdóttir. Formaður menningarráðs Eva Björk Sveinsdóttir afhenti verðlaunin fyrir hönd bæjarstjórnar. Við sama tækifæri var styrktarog stuðningsaðilum Ljósanætur, menningar- og fjölskylduhátíðar Reykjanesbæjar, sem nú var haldin í sextánda sinn, þakkaður stuðningurinn. Fram kom í máli bæjarstjóra, Kjartans Más Kjartanssonar, að virk þátttaka bæjarbúa sjálfra yrði meiri með hverju árinu sem liði og þeirra framlag ásamt fjárhagslegum styrktaraðilum gerði það að verkum að Ljósanótt væri orðin ein af helstu menningarhátíðum landsins. Helstu styrktaraðilar Ljósanætur í ár voru Landsbankinn, Íslandsbanki, HS Orka, Nettó, Norðurál og Skólamatur og voru þeim og öðrum bakhjörlum færðar bestu þakkir.

degi þar sem stutt er á milli sveitarfélaga sem bjóða helstu þjónustu. Við eigum að taka okkur saman sem ein heild og kynna Reykjanesið og alla þá möguleika sem hér felast. Alltaf jákvæð viðbrögð Rannveig segist þakklát öllum þeim sem hafa komið að Reykjanesgönguferðunum og nefnir þar m.a. Víkurfréttir sem hafa fjallað vel um ferðirnar og þá hefur Björgunarsveitin Suðurnes verið samstarfsaðili frá árinu 2008. „Þau hafa oft notað þetta gönguverkefni sem verkefni innansveitar hjá þeim, það er einnig öryggisatriði fyrir mig að hafa þau með því stundum eru hóparnir stórir.” Rannveigi segir gaman að vinna með allskonar fólki og skemmtilegt að búa í umhverfi sem sé jafn opið og jákvætt og raunin sé á Suðurnesjum. „Það er alveg sama við hvern ég tala og hvaða hugmynd ég ber upp, ég hef alltaf fengið jákvæð viðbrögð.“

Fjölmenni var í Duus-húsum við afhendinguna og opnun sýningarinnar.


19

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 19. nóvember 2015

Þakkargjörðarveisla Langbest flytur yfir í Officeraklúbbinn:

„THANKSGIVING” NÝTUR MIKILLA VINSÆLDA - haldið í gamlar hefðir og uppskrift frá tímum Varnarliðsins

Þ

mættu hundruð Keflvíkinga og Njarðvíkinga í kalkúnaveislu. Ingólfur Karlsson kokkaði ofan í Varnarliðsmenn í tólf ár, bæði í Messanum og í Rockville. Þar komst hann yfir gamla og vinsæla uppskrift sem hann hefur haldið sig við æ síðan og verður notuð í veislunni næsta fimmtudag. Þakkargjörðin er ein heilagasta hátíð Bandaríkjamanna og maturinn sem boðið er uppá er hátíðarmatur. Í grunninn er veislan byggð á kalkúnabringu. Einnig er í boði gljáð skinka og með þessu er boðið upp á sætar kartöflur með sykurpúðum. Þá er kartöflumús og tilheyrandi sósa og að sjálfsögðu fylling auk þess sem sultuð trönuber eru borin fram með matnum. Þá er hefð fyrir bökum ýmiskonar í eftirrétt. Þakkargjörðarveislan sem haldin verður í Officeraklúbbnum næsta fimmtudag verður hlaðborð þar sem fólk borgar eitt gjald við innganginn og getur svo borðað á sig gat. Þar verður mikið af meðlæti og svo verða matreiðslumenn í sal sem skera kalkúninn niður á diska fyrir fólk. Þeir Ingólfur og Ásbjörn vonast til að sjá sem flesta en borðpláss verður fyrir a.m.k. 300 manns í hádegi og svo aftur um kvöldið. Verðinu er stillt í hóf eða 2950 kr. á mann, 7-12 ára greiða barnagjald og 6 ára og yngri fá frítt. Þá mun hluti af aðgangseyri renna í söfnun Sigvalda Lárussonar fyrir börn. Nánar má lesa um viðburðinn í auglýsingu í Víkurfréttum í dag.

Ingólfur Karlsson, Reynir Guðjónsson og Ásbjörn Pálsson verða í fremstu víglínu þegar þakkargjörðarveislan verður haldin í Officeraklúbbnum nk. fimmtudag. VF-mynd: Hilmar Bragi

PIPAR\TBWA • SÍA • 150688

ak kargjörðarhátíð eða Thanksgiving var haldin á Keflavíkurflugvelli eins lengi og Varnarliðið var hér á landi en lagðist af með brotthvarfi hersins. Ingólfur Karlsson og Helena Guðjónsdóttir á veitingastaðnum Langbest á Ásbrú ákváðu svo árið 2009 að endurvekja hefðina á sjálfan þakkargjörðardaginn. Fyrsta árið mættu 100 manns í þakkargjörðarveislu en á síðasta ári voru matargestirnir orðnir 300 talsins og mikill fjöldi varð frá að hverfa. Það var því ljóst að gera þurfti ráðstafanir í ár miðað við þær vinsældir sem veislan er farin að njóta. Þakkargjörðarveislan í ár hefur því verið færð frá Langbest yfir í Officeraklúbbinn á Ásbrú. Ingólfur hafði samband við Ásbjörn Pálsson veitingamann í Menu veitingum sem hefur Officeraklúbbinn á sínum snærum. Þeir hafa nú snúið bökum saman og ætla að bjóða upp á þakkargjörðarveislu næsta fimmtudag, 26. nóvember, bæði í hádegi og um kvöldið. Veislan í hádeginu er hugsuð fyrir vinnustaðahópa og einstaklinga en um kvöldið verður áherslan á fjölskyldur. Það tíðkaðist á tímum Varnarliðsins að íslenskum fjölskyldum starfsmanna Varnarliðsins var boðið á völlinn á þakkargjörðardaginn þar sem slegið var upp veislu í Officeraklúbbnum og Messanum. Þangað

Öflug fjáröflun fyrir hópinn Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins

Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi í síma 515 1100 eða næsta útibú Olís og leitið tilboða.

Reykjanesbær Grindavík

Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.

420 1000 426 7500

www.rekstrarland.is

Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100


20

fimmtudagur 19. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-fs-ingur

Bifvélavirki óskast í Reykjanesbæ

vikunnar

Sjórinn er krípí Fannar Gíslason er FS-ingur vikunnar að þessu sinni. Hann er 16 ára og kemur úr Keflavík. Hann hefur áhuga á fótbolta og segir að Kumasi sé best klæddur innan veggja skólans.

HEKLA hf. óskar að ráða í stöðu bifvélavirkja á verkstæði í Reykjanesbæ.

Á hvaða braut ertu?

Hver er fyndnastur í skólanum?

Starfslýsing:

Fjölgreinabraut

• Viðgerðir og viðhald á bifreiðum. • Þátttaka í námskeiðum og símenntun á vegum HEKLU.

Ég bý í Keflavík og er 16 ára

Pálmi Viðar

Helsti kostur FS?

Hnísuna, ég er í henni

Að það mætti vape'a í skólanum #vapelife

Hvað finnst þér vanta í mötuneytið?

Hvaða frasa eða orð notar þú oftast?

Hver er þinn helsti galli?

Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?

Félagslífið

Áhugamál?

Hæfniskröfur:

Ég hef svo sem smá áhuga fyrir fótbolta þó að ég æfi ekki.

• Menntun á sviði bílaviðgerða. • Sjálfstæði í vinnubrögðum, metnaður og vandvirkni. • Stundvísi og almenn reglusemi.

Hvað hræðistu mest?

Sjóinn, hann er krípí

Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna?

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Pétur Sigmundsson, í síma 590 5000 eða spsi@hekla.is.

Nökkvi og Gabríel eiga eftir að vera negla niður þristum einhverstaðar í útlöndum

Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um störf á heimasíðu HEKLU, www.hekla.is

Eftirlætis

HEKLA hf. er leiðandi fyrirtæki í innflutningi, sölu og þjónustu við nýjar bifreiðar. Höfuðstöðvar félagsins eru við Laugaveg 170-174 í Reykjavík. Um 130 manns starfa hjá HEKLU hf. Félagið er með umboð fyrir Volkswagen, Audi, Skoda og Mitsubishi og annast þjónustu við þessar tegundir.

Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS?

Hvaðan ertu og aldur?

Ægis

Kennari:

Haukur

Marlboro eða Salem

Ég get verið virkilega pirraður og þá líkar engum við mig Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér?

Twitter, Snapchat og Facebook

„ákveðin skellur“ Mjög gott!

Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?

Ég hef ekki grænan

Hver er best klædd/ur í FS?

Hver elskar ekki peysuna hans Árna? Annars er Kumasi Máni drullu nett klæddur. Leikari:

Matthew McConoughey Vefsíður:

agar.io

Fag í skólanum:

Enska

Flíkin:

Sokkarnir mínir

Sjónvarpsþættir:

Game of Thrones

Skyndibiti:

Kvikmynd:

Lord of the Rings myndirnar Hljómsveit/tónlistarmaður:

kef LAVÍK

Hvað sástu síðast í bíó?

Villabar

Hvaða tónlist/lag fílarðu í laumi (gulity pleasure)?

Earth, Wind and Fire

Við bjóðum á morgunverðarfund Opinn fundur um efnahagsumhverfi fyrirtækja Við bjóðum fulltrúum fyrirtækja á Reykjanesi til fundar um efnahagsmál, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 8.30 til 10.00 í Merkinesi (Hljómahöll). Fundurinn er opinn öllum og aðgangur er ókeypis. Húsið verður opnað kl. 8.10 og boðið upp á léttan morgunverð. Skráðu þig á islandsbanki.is islandsbanki.is

Netspjall

Sími 440 4000

Facebook

Una Steinsdóttir framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka flytur ávarp. Ingólfur Bender forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka kynnir nýútkomna Þjóðhagsspá Greiningar. Elín Árnadóttir aðstoðarforstjóri ISAVIA fjallar um uppbyggingaráform á Keflavíkurflugvelli.


21

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 19. nóvember 2015

Vilja byggja gisti- og spaaðstöðu á Garðskaga XXEigendur Skagabrautar 86 í Garði hafa óskað eftir því við Skipulagsog byggingarnefnd Sveitarfélagsins Garðs að fá að reisa ca. 360 m2 gistiog spaaðstöðu á lóð sinni. Skipulags- og byggingarnefndin segir í afgreiðslu sinni ljóst er að umsóknin falli ekki að nýsamþykktu Aðalskipulagi Garðs. Nefndin telur þó hugmyndina áhugaverða eins og hún er sett fram og telur að erindið til þess fallið að verða tekið til umfjöllunar í stefnumótun stýrihóps um atvinnumál og ferðaþjónustu á Garðskaga. Þá telur nefndin rétt að vekja athygli umsækjanda á deiliskipulagi Útgarðs sem nú er í deiliskipulagsferli, skammt frá Skagabraut 86, en það svæði gæti verið kjörið fyrir þær hugmyndir sem eru settar fram í erindinu.

Jólalýsing í

Kirkjugörðum Keflavíkur

Jólaljósin verða tendruð í Kirkjugörðum Keflavíkur 1. sunnudag í aðventu, þann 29. nóvember. Ljós verða tendruð í Hólmbergsgarði kl. 16:00 og í kirkjugarðinum við Aðalgötu kl. 17.00. Þeir sem kjósa að nýta þjónustu garðanna varðandi leiðislýsingu á aðventu og jólum eru beðnir um að greiða valkröfu í heimabanka og setja ljós tímanlega á leiði. Þeir sem greiða kröfu í heimabanka geta komið krossum fyrir á leiðum óháð opnunartíma mótttöku. Starfsmenn kirkjugarðanna munu fylgjast með hverjir greiða kröfu og tengja þá krossa, að jafnaði innan 2 virkra daga frá greiðslu kröfunnar. Verð fyrir uppsetningu og lýsingu á aðventu og fram á þrettánda er kr. 4.500.- fyrir einn kross en 3.500.- fyrir hvern kross eftir það. Opnunartímar Kirkjugarða Keflavíkur vegna móttöku lýsingargjalda og til að aðstoða þá sem á aðstoð þurfa að halda við uppsetningu krossa verður:

Kynna fjárhag sveitarfélagsins fyrir bæjarbúum XXBæjarráð Sveitarfélagsins Garðs hefur ákveðið að boða til íbúafundar í Garði á mánudagskvöld. Fundurinn verður til kynningar á fjárhagsáætlun og fjárhag sveitarfélagsins. Á fundinum verður einnig kynnt uppbygging á ferðaþjónustu á Garðskaga og drög að samningi á milli Sveitarfélagsins Garðs og Garðskaga ehf. um uppbyggingu ferðaþjónustu og afnot af eignum sveitarfélagsins á Garðskaga.

Miðvikudagur 25. nóvember kl. 13:00 – 17:00 Fimmtudagur 26. nóvember kl. 13:00 – 17:00 Föstudagur 27. nóvember kl. 13:00 – 17:00 Laugardagur 28. nóvember kl. 10:00 – 15:00 Sunnudagur 29. nóvember kl. 13:00 – 15:00 Opið verður frá 1. – 17. desember. Þriðjudaga kl. 15:00 – 17:00 Fimmtudaga kl. 15:00 – 17:00. Leigu- og sölukrossar verða á staðnum. Nánari upplýsingar veitir kirkjugarðsvörður Friðbjörn Björnsson s. 824 6191 milli kl. 10:00 og 16:00 alla virka daga.

Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001 KONUKVÖLD SJÁUMST Í KVÖLD Í BLÁA LÓNINU Þér og vinkonum þínum er boðið í létt dekur á huggulegu konukvöldi í kvöld klukkan 19:30, í verslun okkar í Bláa Lóninu. • 30% afsláttur af Blue Lagoon húðvörum • 20% afsláttur af öðrum vörum • Glaðningur með öllum vörukaupum • Allar konur sem versla fara í pott og þrjár heppnar geta unnið veglegan húðvörupakka • Veitingar frá matreiðslumeisturum LAVA • Tónaflæði í höndum DJ Yamaho


22

fimmtudagur 19. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-íþróttir

Körfuboltinn að hasla sér völl í Garðinum

G

arðurinn hefur ekki beint verið kenndur við körfubolta í gegnum tíðina. Sveitafélagið hefur alið af sér knattspyrnufólk í fremstu röð og Garðbúar ylja sér við minningar frá gulldrengjunum sem spiluðu í efstu deild á níunda áratug síðustu aldar. Körfubolti er þó að skjóta rótum í bæjarfélaginu

og eru nú um 30 krakkar að æfa sig af fullum krafti fyrir Nettómótið vinsæla. Síðustu tvö ár hefur verið haldið námskeið í Garðinum áður en Nettómótið fer fram. Iðkendur eru frá 3.-6. bekk, núna er 15 strákar og 15 stelpur að æfa og enn er að bætast við. Á mótinu má því búast við

Víðisbúningum og vöskum keppendum úr Garðinum. „Mér finnst vera mjög mikill áhugi og ég held að það séu allir rosalega ánægðir með þetta framtak,“ segir Bára Bragadóttir sem sér um þjálfun krakkanna ásamt Óla Garðari Axelssyni sem kom æfingum á laggirnar. Bára er uppalin í Garðinum en hún kynntist sjálf körfubolta þegar hún var 12 ára gömul. „Þá var Gunnar Einarsson Keflvíkingur að kenna okkur leikfimi um tíma og lét okkur spila körfubolta. Þá kviknaði áhuginn hjá mörgum og við fórum nokkrar stelpur að æfa körfubolta eftir það.“

Bára fór að æfa með Keflavík og náði frábærum árangri á ferli sínum þar. Hún var valin í unglingalandslið margsinnis og vann titla með yngri flokkum og meistaraflokki. „Þetta var mikið ævintýri. Ég ferðaðist m.a. til Eistlands og Ítalíu með landsliðinu. Við urðum Norðurlandameistarar og höfnuðum í öðru sæti á Evrópumótinu. Þetta var skemmtilegur tími.“ Bára þakkar móður sinni fyrir að gera sér það kleift að sækja æfingar á sínum tíma. „Það var enginn strætó á þeim tíma og því var gott að eiga góða mömmu sem skutlaði mér og sótti mig mörgu sinnum í viku á æfingar.“ Sér eftir því að hafa hætt snemma Bára ásamt Ingibjörgu Elvu Vilbergsdóttur hafa náð hvað bestum árangri Garðbúa í körfuboltanum en þær byrjuðu að æfa á sama tíma.

RAFRÆN ÍBÚAKOSNING UM BREYTINGU Á DEILISKIPULAGI Í HELGUVÍK Kosning fer fram frá 24. nóvember kl. 02:00 til kl. 02:00 aðfaranótt 4. desember 2015. Kjósendur þurfa að nota Íslykil frá Þjóðskrá Íslands eða rafræn skilríki frá Auðkenni til að geta kosið. Kjörskráin er rafræn. Auðkenni kjósanda er aðgreint frá kosningahluta íbúakosningakerfisins með því að auðkenningarhlutinn skilar kennitölu til kosningahlutans. Atkvæði eru geymd dulkóðuð. Boðið verður upp á aðgang að tölvum og aðstoð í Bókasafni Reykjanesbæjar meðan á kosningu stendur. Safnið er opið kl. 9:00 – 18:00 virka daga og kl. 11:00 – 17:00 laugardaga. Hægt er að fá aðstoð við að sækja Íslykil. Framvísa þarf vegabréfi, ökuskírteini eða nafnskírteini, ekki nægir að nota debet- eða kreditkort. Atkvæðagreiðsla á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og hjúkrunar- og dvalarheimilum Reykjanesbæjar fer fram 26. til 30. nóvember 2015 samkvæmt auglýsingu á viðkomandi stofnunum. Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar

Þau Óli Garðar og Bára sjá um að miðla körfuboltaþekkingu til ungviðisins í Garðinum.

Bára með Keflavík og Ingibjörg með Njarðvík. „Það skildi enginn af hverju við fórum í sitt hvort liðið. Fjölskyldan hennar er þó úr Njarðvík og ég hélt alltaf með Keflavík.“ Ingibjörg lék um tíma með Njarðvík en þær Bára spiluðu svo saman í Keflavík frá árinu 2004. Bára hætti í körfuboltanum árið 2008 þá rétt orðin tvítug. „Ég held að ég sjái pínulítið eftir því að hafa hætt svona snemma. Það var svo mikið fjör í kringum þetta og það var mikil velgengni þegar maður var að byrja í meistaraflokki.“ Hún segir það dálítið freistandi að taka fram skóna aftur. „Við Ingibjörg vorum bara að ræða það um daginn hvað okkur langaði að byrja

aftur, skildum ekkert í okkur að hafa hætt,“ segir hún létt í bragði. Bára segist vel geta hugsað sér að þjálfa áfram eða koma nálægt körfuboltanum aftur með einhverjum hætti. „Ég hef rosalega gaman af þessu og skil ekkert í mér að hafa ekkert verið meira í kringum þetta.“ Æft er tvisvar í viku í Garðinum fram að Nettómóti sem fram fer í mars og vonandi lengur að sögn Báru „Þetta er allavega byrjunin og það væri gaman að byrja fyrr næsta vetur og hafa meira skipulag í kringum þetta. Það yrði ekki leiðinlegt ef körfuboltinn næði að festa rótum í Garðinum,“ segir Bára að lokum.

Níu Íslandsmeistaratitlar til ÍRB – sex sundmenn á NM og einn á EM

XSundlið X ÍRB átti vann níu Íslandsmeistaratitla á Íslandsmeistaramótinu í 25m laug sem fram fór í Hafnarfirði um helgina. Þröstur Bjarnason varð Íslandsmeistari í 1500m skriðsundi, 800m skriðsundi og 400m skriðsundi, Baldvin Sigmarsson varð Íslandsmeistari í 200m flugsundi og 400m fjórsundi, Sunneva Dögg Friðriksdóttir varð Íslandsmeistari í 200m og 400m skriðsundi og Eydís Ósk Kolbeinsdóttir varð Íslandsmeistari í 1500m skriðsundi. Sunneva Dögg Friðriksdóttir náði lágmörkum fyrir EM 25 þegar hún sigraði í 400m skriðsundinu, og um leið bætti hún fimm ára gamalt Íslandsmet stúlkna 15–17 ára. Kvennasveit ÍRB varð Íslandsmeistari í 4x200m skriðsundi, en sveitina skipuðu þær Sunneva Dögg Friðriksdóttir, Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Stefanía Sigurþórsdóttir og Karen Mist Arngeirsdóttir. Kvennasveit ÍRB setti Íslandsmet í flokki 15-17 ára í 4x100m fjórsundi, þegar þær höfnuðu í öðru sæti á frábærum tíma, þar sem þær bættu gamla metið um heilar fjórar sekúndur. Sveitina skipuðu þær: Íris Ósk Hilmarsdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir, Gunnhildur Björg Baldursdóttir og Sunneva Dögg Friðriksdóttir. Sex sundmenn ÍRB náðu lágmörkum fyrir NM og einn sundmaður náði lágmörkum fyrir EM.

Ragnheiður Sara í öðru sæti XXRagnheiður Sara Sigmundsdóttir úr Crossfit Suðurnes hafnaði í öðru sæti á Íslandsmótinu í Crossfit sem fram fór um helgina. Aðeins heimsmeistarinn sjálfur Katrín Tanja Davíðsdóttir náði betri árangri, en aðeins munaði 15 stigum á þeim stöllum. Ragnheiður Sara sigraði í fimm greinum af tíu en Katrín Tanja náði að hala inn fleiri stigum þrátt fyrir að sigra aðeins í þremur greinum. Jóhanna Júlía Júlíusdóttir frá Crossfit Suðurnes stóð sig einnig vel á mótinu og hafnaði í 9. sæti.


23

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 19. nóvember 2015

Eyþór Sæmundsson // pósturu eythor@vf.is

Arnar náði frábærum árangri H

Hnefaleikafélag Reykjaness gerði gott mót

nefaleikafélag Reykjaness sótti um helgina mót í hnefaleikum þar sem liðsmenn náðu sér í svokallaða diploma viðurkenningu. Arnar Þorsteinsson bar af á mótinu um en hann fékk hæstu einkunn fyrir allar þrjár viðureignir sínar (45, 44, 45 af 45 stigum mögulegum). Ekki nóg með það heldur varð hann einnig fyrstur hnefaleikakappa á Íslandi til þess að fá afhent gulldiploma fyrir framúrskarandi stigagjöf í fimm bardögum. Þetta er stórt stökk bæði fyrir Hnefa-

leika á Suðurnesjum sem og landsvísu. Arnar sem er aðeins 15 ára hefur sýnt fram á að hann er einn efnilegasti hnefaleikakappi sem landið hefur upp á að bjóða, bæði í diploma og ólympískum hnefaleikum. Fimm keppendur kepptu fyrir hönd Hnefaleikafélag Reykjaness en þeir voru: Arnar Þorsteinsson, Benóný Færset, Friðrik R. Friðriksson, Gabríel Andrason og Stancho Vasilev. Strákarnir fóru á kostum í sínum viðureignum, en nær allir kepptu tvo bardaga.

- smáauglýsingar

TIL LEIGU Íbúð til leigu í Keflavík til einstaklings/pars. Aðeins fyrir reyklaust reglusamt fólk með fasta vinnu. Ekkert dýrahald. Laus strax. Sími:8630733.

Laghentir, bílaverkstæði og varahlutasala, óska eftir bifvélavirkja eða starfsmanni í bílaviðgerðir. Umsækjandi verður að hafa þekkingu og reynslu af bílaviðgerðum.

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla

Um framtíðarstarf er að ræða. Upplýsingar má nálgast hjá Guðmundi í síma 776-7600, með tölvupósti á netfangið laghentirehf@gmail.com eða á staðnum, við Bolafót 1.

Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

Verið velkomin

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

Stöndum öll saman sem ein þjóð

www.vf.is Á myndinni má sjá Arnar Þorsteinsson ásamt þjálfurunum Birni Snævari Björnssyni og Eskil Daða Eðvaldssyni.

ATVINNA

Sýnum kærleik og samkennd í verki. Við megum ekki gleyma fátæka fólkinu á Íslandi. Jólasöfnun er hafin hjá Fjölskylduhjálp Íslands.

546-26-6609, kt. 660903-2590 Hjálpið okkur að hjálpa öðrum. Margt smátt gerir eitt stórt.

Guð blessi ykkur öll

KEFLAVÍK - KR

FIMMTUDAGINN 19. NÓVEMBER KL. 19:15

L TI R TI U AT ÍT HV HV N Í EN TA N SM MÆ KIN NG Ð EI NI A Á L UÐ SS ST ÞE

FRÍTT INN Í BOÐI NETTÓ GRILLAÐIR HAMBORGARAR VERÐA Á SÍNUM STAÐ FYRIR LEIK.


Markhönnun ehf

SNICKERS SNACKSIZE 4PK VERÐ ÁÐUR 329 KR/PK

299

298

KR PK

HERSHEY’S EXTRA CREAMY MILK - 45 G HERSHEY’S COOKIES ‘N CREAM - 45 G

OREO KEX 66 G VERÐ ÁÐUR 129 KR/PK

159

KR PK

PEPSI / PEPSI MAX 2 L

REESE’S NUT BAR - 47 G REESE’S STICKS - 42 G

179

159

VERÐ ÁÐUR 197 KR/STK

KR STK

KR STK

WRIGLEYS TYGGJÓ 7 PK

VERÐ ÁÐUR 189 KR/STK

99

OCEAN SPRAY BLÁBERJASAFI 1 L

VERÐ ÁÐUR 299 KR/PK

239

KR STK

KR PK

REESE’S STICKS - 42 G

VERÐ ÁÐUR 189 KR/PK

VERÐ ÁÐUR 189 KR/PK

159

KR PK

BEN & JERRY’S ÝMSAR TEGUNDIR

979

KR PK

KR PK

NÝTT

SWEET MUSTARD

LAYS SNAKK

ÝMSAR TEGUNDIR

289 Tilboðin gilda 19. - 25. nóv. www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Búðakór· Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss | Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana

KR PK


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook