Skip to main content

46 tbl 2016

Page 1

• fimmtudagurinn 24. nóvember 2016 • 46. tölublað • 37. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Erfitt að horfa á þessa staðreynd ●●segir Kristján Gunnarsson formaður VSFK. Kynbundinn launamunur hefur aukist frá árinu 2014, úr 12,4% í 13,7%

Hátíð til heiðurs munkum Haldin var Kathina hátíð í Búddahofinu við Tjarnargötu í Reykjanesbæ þann 13. nóvember síðastliðinn. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, heimsótti hofið við það tilefni. Kathina hátíðin á sér langa hefð í gegnum aldirnar hjá búddistum víða um heim. Orðið Kathina vísar til ramma úr viði sem notaður er til að mæla lengd og vídd á kuflum búddamunka. Tilgangur hátíðarinnar er að heiðra munka sem hafa varið þremur mánuðum fyrir hátíðina í að hreinsa hug sinn og líkama og afhenda þeim nýja kufla. Meðfylgjandi mynd var tekin á Kathina hátíðinni í Reykjanesbæ á dögunum.

Hiti í bæjarbúum vegna brunalyktar frá kísilveri ●●Reykhreinsivirki verksmiðju United Silicon í Helguvík ekki notað fyrstu dagana l Fullkomnari bruni mun eyða kamínubrunalykt að mestu l Umhverfisstofnun í fyrirvaralausar heimsóknir í kísilverið

FÍTON / SÍA

Reykhreinsivirki verksmiðju United Silicon í Helguvík var ekki notað síðustu daga þegar ofn verksmiðjunnar var hitaður upp með eldiviði og rafskaut í ofninum bökuð, samkvæmt upplýsingum frá forsvarsmönnum fyrirtækisins. Bálið sem logaði í ofninum var því ekki ósvipað bálkesti á gamlárskvöld. Lyktar, sem líkist helst kamínubrunalykt, hefur orðið vart í Reykjanesbæ. Í Yfirlýsingu United Silicon, sem birtist í Víkurfréttum í dag, segir að reykurinn sé ekki hættulegur. Hins vegar var hætta á því að reykurinn frá bálinu gæti eyðilagt pokasíur í hreinsivirkinu. Framleiðsla kísilmálms er nú hafin hjá United Silicon og allur reykur frá framleiðslunni fer nú í gegnum reykhreinsivirkið. Hins vegar hafi komið upp vandamál í stjórnkerfi aðalvifta verksmiðjunnar þannig að reyk hefur

einföld reiknivél á ebox.is

lagt frá ofnhúsi verksmiðjunnar. Loftræsikerfi hafi slegið út síðla nætur og því ekki tekist að hreinsa reykinn sem lagði um og út frá verksmiðjunni. Unnið er að endurbótum á loftræstikerfi byggingarinnar svo atvik sem þessi eigi sér ekki stað. Þá segir að með hækkandi álagi á ofn verksmiðjunnar hækki hitinn inni í ofninum sem leiði til fullkomnari bruna á timburflís sem eyðir mest allri kamínubrunalykt. Gert er ráð fyrir að ofninn verði kominn í full afköst í lok mánaðarins, segir í yfirlýsingu frá fyrirtækinu sem birt er í Víkurfréttum í dag. Umhverfisstofnun hefur á síðustu dögum borist fjöldi ábendinga, annars vegar um reyk frá verksmiðjunni og hins vegar um viðvarandi brunalykt. Fulltrúar stofnunarinnar hafa verið í sambandi við fyrirtækið til að fá

nánari upplýsingar og hafa tvívegis á síðustu dögum farið í fyrirvaralaust eftirlit í verksmiðjuna til að fá betri og nákvæmari upplýsingar og einnig til að staðfesta umrædda lykt eða reyklosun. Samfélagsmiðlar eins og Facebook hafa logað síðustu daga vegna reykjarlyktarinnar frá verksmiðjunni og ljóst af umræðunni að bæjarbúar í Reykjanesbæ eru ekki sáttir við hlutskipti sitt og kvíða framhaldinu með fjölgun ofna og fjölgun verksmiðja í Helguvík. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, óskaði eftir fundi með forstjóra United Silicon um síðustu helgi þar sem farið var yfir stöðuna og annan stöðufund átti að halda í gær. Kjartan tók saman pistil um stöðuna en hann má lesa á vef Víkurfrétta.

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Ky n b u n d i n n launamunur hefur hækkað frá árinu 2014, úr 12,4% í 13,7% innan Flóabandalagsins og segir Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðsog sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis það vera mikið áfall. „Þetta er óþolandi og okkar mesta áhyggjuefni,“ segir Kristján við Víkurfréttir. „Einn jákvæðasti punkturinn í niðurstöðum könnunarinnar er sá að meðaltal heildarlauna hækkaði úr 372 þúsundum í 429 þúsund á milli ára, sem er 15,4% hækkun, á meðan taxtar hafa hækkað um 6,2%. Á sama tíma hefur verðbólga verið undir markmiðum Seðlabankans.“ Samt sem áður er staða fólks á svæðinu mjög viðkvæm að sögn Kristjáns og segjast 16% svarenda hjá VSFK hafa mjög miklar áhyggjur af fjárhagslegri stöðu sinni. // 8

Á síðasta ári hafa rafrettureykingar meðal nemenda í FS aukist. Sumir nemenda reykja jafnvel inni í skólanum.

Rafrettu-reykingar grunnskólanema algengastar á Suðurnesjum Tæp 11% nemenda í 8. til 10. bekk á Suðurnesjum hafa reykt rafrettur tíu sinnum eða oftar Rannsóknir sýna að ungmenni sem reykja rafrettur séu líklegri til að ánetjast hefðbundnum sígarettum síðar á ævinni Á Suðurnesjum hafa 10,5 prósent ungmenna í 8. til 10. bekk reykt rafrettur tíu sinnum eða oftar um ævina og er það hæsta hlutfallið á landsvísu. Þessar upplýsingar koma fram í í rannsókn á líðan og heilsu ungs fólks á Íslandi sem unnin var af Rannsóknum og greiningu. Hlutfallið á landsvísu er 5,9 prósent. Minnst er notkun rafretta meðal ungmenna á höfuðborgarsvæðinu eða 4,1 prósent. Að sögn Guðlaugar Pálsdóttur, aðstoðarskólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja, varð þess vart á síðasta skólaári að nemendur væru byrjaðir að reykja rafrettur og það jafnvel inni í skólanum. Mjög lítill hluti nemenda við FS reykir hefðbundnar sígarettur enda hefur góður árangur náðst við að minnka reykingar á Íslandi. Guðlaug segir rafretturnar hentugar fyrir fólk sem er að reyna að hætta hefðbundnum reykingum en ekki aðra. „Í dag er það orðið þannig að það þykir flott hjá sumum nemendum að nota rafrettur. Við erum búin að tala við marga nemendur í skólanum varðandi notkun á rafrettum og flestir

tala um að þetta sé fíkn. Það er nefnilega hægt að kaupa fyllingu í þær með miklu nikótíni,“ segir hún. Niðurstöður rannsóknarinnar um líðan og heilsu ungmenna á Íslandi voru kynntar á hádegisfundi í Háskólanum í Reykjavík á dögunum. Á kynningunni kom fram í máli Margrétar Lilju Guðmundsdóttur, aðjúnkts við HR, að lítið væri í raun vitað um rafrettur enda væru þær tiltölulega nýjar á markaðnum. Mælt hafi verið með þeim fyrir þá sem vilji hætta að reykja en þegar nánar sé að gáð þá hafi 44 prósent þeirra sem nota rafrettur í grunnskóla ekki reykt tóbak áður. Margrét sagði afar áhættusamt þegar ungmenni reyki rafrettur. Þó að sagt sé að í þeim sé ekkert níkótín þá geti það þýtt ýmislegt fleira því að þær geti jafnvel innihaldið níkótín. Kannanir sýni fram á að þau ungmenni sem hafi ekki reykt áður en noti rafrettur ánetjist sígarettum eða níkótíni síðar um ævina. Þetta viti tóbaksfyrirtækin sem horfi á rafrettur sem markaðstæki til að fá til sín nýja viðskiptavini þar sem átak gegn sígarettu- og tóbaksframleiðendum hafi dregið úr tekjum þeirra. Þessu til staðfestingar benti Margrét á að tóbaksframleiðendur eigi stóra eignahluti í rafrettufyrirtækjum eða að minnsta kosti 30 prósent þeirra.


2

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 24. nóvember 2016

Talinn hafa rænt fjögur apótek ●●Handtekinn eftir vopnað rán í Apóteki Suðurnesja ■■Annar þeirra sem handtekinn var fyrir vopnað rán í Apóteki Suðurnesja í vikunni er grunaður um þrjú önnur rán í apótekum að undanförnu. Á mbl.is var greint frá því að ránin hafi átt sér stað í fjórum mismunandi bæjarfélögum. Fyrsta ránið var framið 26. september í Kópavogi, annað í Suðurveri í Reykjavík þann 5. nóvember og það þriðja 9. nóvember í Apóteki Ólafsvíkur. Á þriðjudagskvöld var hann svo handtekinn eftir vopnað rán í Apóteki Suðurnesja við Hringbraut í Reykjanesbæ.

ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM

DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.

SUÐURNES - REYK JAVÍK SÍMI: 845 0900

FINNDU OKKUR Á FACEBOOK

Kennarar á Suðurnesjum fjölmenntu á baráttufund í Andrew´s Theatre á þriðjudag. Þeir krefjast hækkunar á grunnlaunum og vilja frekar miða við krónutölu en prósentuhækkun þar sem launin séu lág. VF-mynd/hilmarbragi

Þungt hljóð í kennurum ●●Tíu kennarar við Holtaskóla hafa sagt upp Kennarar á Suðurnesjum fjölmenntu á baráttufund sem haldinn var í Andrew’s Theater á Ásbrú á þriðjudag. Kennarar um allt land lögðu niður störf þann dag klukkan 13:30 og funduðu um stöðu kjaramála sinna. Kennarar krefjast hækkunar á grunnlaunum sínum og hafa tvívegis á árinu fellt kjarasamninga. Að sögn Maríu Sigurðardóttur, kennara við Holtaskóla í Reykjanesbæ, hafa tíu kennarar við skólann sagt starfi sínu lausu í vikunni. Hún er þeirra á meðal. „Það er afskaplega erfitt að segja upp starfi sem maður elskar og þetta var erfitt skref að taka,“ segir hún. Hún segir kennara vilja laun miðað við menntun og ábyrgð. Hún telur að kennarar séu flestir sammála um 100.000 króna launahækkun og vilja síður miða við prósentuhækkun þar sem launin séu lág. Eftir því sem Víkurfréttir komast næst hafa kennarar í öðrum grunn-

skólum á Suðurnesjum ekki sagt upp störfum enn sem komið er. Hljóðið í kennurum mun vera farið að þyngjast verulega og hluti þeirra farinn að íhuga uppsögn.

Hlynur Þór Valsson, kennari við Grunnskólann í Sandgerði, var fundarstjóri fundarins á þriðjudag. Í máli hans kom meðal annars fram að kennarar hafi fengið meir en nóg af samningum sem litlu hafa skilað. „Margir kollegar okkar eru byrjaðir að segja upp starfi sínu. Sú staðreynd er hræðileg og óttast ég stöðu skólanna og afleiðingar þessa,“ sagði hann. Nemendaráð Heiðarskóla sendi fyrr í þessum mánuði frá sér stuðningsyfirlýsingu við kjarabaráttu kennara og ávörpuðu Arnór Daði Jónsson formaður þess og Bergur Daði Ágústsson varaformaður baráttufundinn. Þeir eru báðir synir kennara og telja sig því hafa góða innsýn í starfið. Þeir sögðu starfið miklu meiri vinnu en frá átta til fjögur og launin fáránleg. Eftir fimm ára háskólanám fái kennarar lægri laun en í störfum þar sem ekki er krafist menntunar.

JÓLIN

KOMA ....

og ljósin tendrud Tendrun á ljósum vinabæjarjólatrésins frá Kristiansand í Noregi fer fram á Tjarnargötutorgi laugardaginn 26. nóvember kl. 17.

Dagskrá:

Heitt kakó og piparkökur í boði fyrir gesti.

Jólatónlist leikin af blásarasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Sendiráðsritari norska sendiráðsins afhendir tréð. Forseti bæjarstjórnar veitir trénu viðtöku. Bergur Leon Bjarnason nemandi úr 6. bekk Holtaskóla kveikir ljósin á trénu. Skjóða og Langleggur, systkini jólasveinanna skemmta börnunum. Jólasveinar bætast í hópinn og jólaballi slegið upp, dansað í kringum jólatréð. Dagskrá lýkur kl.18.00

Eldur í mannlausu fjölbýlishúsi á Ásbrú ■■Eldur kviknaði í mannlausu fjölbýlishúsi við Keilisbraut á Ásbrú aðfararnótt þriðjudags. Þegar tilkynning barst um eldinn, um klukkan hálf þrjú, logaði eldur út um tvo glugga á fyrstu hæð og hafði eldurinn teygt sig upp með hliðinni á húsinu. Að sögn Ólafs Inga Jónssonar, verkefnastjóra á forvarnasviði hjá Brunavörnum Suðurnesja, gekk slökkvistarf vel og lauk því um klukkan hálf átta á þriðjudagsmorgunn. „Það var töluverður reykur þegar við mættum á vettvang en við náðum fljótlega tökum á aðstæðum,“ segir hann. Nokkuð bil er á milli húsa á svæðinu og hafa ekki borist tilkynningar um reykskemmdir í öðrum byggingum. Reykur og hiti fóru víða um bygginguna, sem er á þremur hæðum, og lítur út fyrir að tjón hafi verið töluvert. Lögreglan á Suðurnesjum vinnur nú að rannsókn á upptökum brunans. Ekki var rafmagn á byggingunni.


Hagspá Landsbankans Vandi fylgir vegsemd hverri

Fundur í tilefni af útgáfu Þjóðhags, ársrits Hagfræðideildar Landsbankans, verður haldinn á Park Inn by Radisson, Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ, föstudaginn 25. nóvember kl. 8.30 – 10.00. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8:00.

Stoðirnar þrjár Aukning útflutningsverðmætis milli 2009 og 2015

Ferðaþjónusta 214 ma. kr. Stóriðja 67 ma. kr. Sjávarafurðir 56 ma. kr.

Dagskrá fundar

Fundarstjóri

Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans, kynnir þjóðhags- og verðbólguspá bankans.

Halldór Kristinsson, deildarstjóri Eignastýringar Landsbankans, fjallar um stöðu og horfur á skuldabréfamarkaði.

Skráning á: fyrirtaeki@landsbankinn.is

Landsbankinn

landsbankinn.is

410 4000

Kristinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Securitas Reykjanesi, fjallar um áskoranir í rekstri á Reykjanesi.

Einar Hannesson, útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ.


Sparaðu fyrir jólin!

markhönnun ehf

-40% aðvenTusTeik grísaBógur fyllTur m/kanel og eplum Áður: 2.498 kr/kG KR KG

hamBorgarhryggur Áður: 1.585 kr/kG KR KG

1.189

1.499

ís Á

2

opal lax 1/2 flak - reykTur eða grafinn Áður: 4.449 kr/kG KR KG

nauTalundir erlendar - frosið Áður: 3.998 kr/kG KR KG

-40%

lamBalæri ferskT með salT og pipar Áður: 1.698 kr/kG KR KG

2.669

3.398

-50%

-25%

2.293

-30% ungnauTahamBorgarar 4x90 gr.með Brauði Áður: 1.398 kr/pk KR pK

1.199

749 599

1.494

lamBalæri - frosið Áður: 1.394 kr/kG KR KG

pasTaTeningar skinka/Beikon Áður: 1.498 kr/kG KR KG

Tradizionale pizza - 3 gerðir Áður: 749 kr/STk KR STK

hangiframparTur - ÚrBein Áður: 2.698 kr/kG KR KG

979 KLEMENTÍNUR

-20%

Barnamatur

99

KR KG

-20% Tilboðin gilda 24. – 27. nóvember 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


%

Franskur gæðakalkúnn á frábæru verði kalkÚnn heill - frosinn sTærð: 4,6 kg, 5,4 kg, 6,6 kg, 7,2 kg KR KG

998

-25% ísfugl kalkÚnaBringa - fersk Áður: 3.957 kr/kG KR KG

gæs heil 4 kg. - frosin KR KG

1.749

2.968

TAKMARKAÐ MAGN!

EKTA

AMERÍSK KA LKÚNAF

YLLING

B&J 500 ML. AÐEiNS:

Fjölbreytt KR 998 STK úrval af ís

Verum fín um jólin Jólapeysa 4 gerðir

2.998 KRSTK annas piparkökuhÚs 300 g KR pK

599

Kalkúnafylling: 1 skorpulaust brauð, skorið niður 1 laukur, saxaður 3 sellerí stönglar, skornir smátt 250 g. ferskir sveppir niðurskornir 1-2 egg 1/2 ltr mjólk (ca), hafa frekar blautt 50g. Brætt smjör Salvía ca 1/2 staukur Smá salt Brauði, mjólk og salti blandað saman Næst er bætt við lauk, sellerí, sveppum og salvíu Smjörið brætt og því blandað saman við og svo að lokum eggjum. Bakað við 175gráður í ca.60 mín.

ódýrT Jólapiparkökur 300 gr. KR pK

269

anna’s piparkökur - 375 g KR pK

498

only JóladagaTal KR pK

199

www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss


6

VÍKURFRÉTTIR

RITSTJÓRNARPISTILL Páll Ketilsson

ÁFRAM KONUR! Markaðssetning er mikilvæg í mörgum málum og við getum nefnt tvö mál í þessum pistli núna. Í umfjöllun Víkurfrétta í þessari viku er sagt frá mikilli aukningu á rafrettu-reykingum meðal ungs fólks. Þá segjum við frá því að kynbundinn munur á launum hafi aukist. Það kemur fram í könnun sem meðal annars var gerð meðal félaga í Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis. Hvar kemur markaðssetning inn í þessa umræðu? Jú, alveg eins og það hefur í gegnum tíðina verið vakin athygli á skaðsemi reykinga á margvíslegan hátt þá er ljóst að stórauka þarf forvarnir og umræðu um skaðsemi þessarar nýju hættu. Þessar rafrettur hafa ratað inn í skólana og aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja sá sig knúna til að senda foreldrum pistil þar sem hún lýsti yfir miklum áhyggjum sínum í slæmri þróun í þessum málum. Í viðtali við VF segir hún: „Í dag er það orðið þannig að það þykir flott hjá sumum nemendum að nota rafrettur. Við erum búin að tala við marga nemendur í skólanum varðandi notkun á rafrettum og flestir tala um að þetta sé fíkn. Það er nefnilega hægt að kaupa fyllingu í þær með miklu nikótíni.“ Í hinu atriðinu sem hér er vakin athygli á varðandi markaðssetningu er launamunur kynjanna. Þegar blaðamaður Víkurfrétta spurði formann Verkalýðsfélags Keflavíkur og nágrennis í viðtali hvort það væri ekki lag að félagið færi af stað með markaðs- og auglýsingaherferð sem væri hvetjandi fyrir konur, það er að þær töluðu meira við sína yfirmenn og óskuðu eftir launaviðtali, svaraði hann því til að konur væru hógværari en karlar. Í könnuninni kemur fram að þær eru ekki nærri eins duglegar og karlar að biðja um launaviðtal. Það væri líklega nokkuð flott og myndi örugglega gleðja jafnréttissinna ef félagið færi þá leið að útbúa eitthvað markaðsefni til að hvetja konur til að vera ekki svona hógværar!

fimmtudagur 24. nóvember 2016

Bókakonfekt Bókasafns Reykjanesbæjar Bókasafn Reykjanesbæjar heldur hið árlega Bókakonfekt miðvikudagskvöldið 30. nóvember klukkan 19:45. Rithöfundarnir Guðmundur Karl Brynjarsson, Guðmundur Andri Thorsson og Vigdís Grímsdóttir lesa upp úr nýjustu bókum sínum. Ljóðabókin Hvolf eftir Guðmund Karl Brynjarsson er leiftur minninga, hugsanir um bresti, glíma við hinstu rök tilverunnar og ábending um von. Í bókinni vakna einnig þekktar og

minna þekktar persónur gamla testamentisins til lífsins og takast á við lífið í nútímanum. Hvolf er fyrsta ljóðabók Guðmundar Karls. Hæg breytileg átt er fyrsta ljóðabók Guðmundar Andra Thorssonar. Í bókinni má finna 101 hæku sem ortar eru á öllum árstímum og öllum tímum sólarhringsins og um öll skeið mannsævinnar. Elsku Drauma mín er minningabók Sigríðar Halldórsdóttur. Vigdís skrá-

setti frásögn baráttukonunnar, mannvinarins, móðurinnar og heimasætunnar á Gljúfrasteini af fullkomnum trúnaði við Sigríði og tíðarandann. Gestir verða boðnir hjartanlega velkomnir með lifandi tónlist frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Boðið verður upp á kaffi og konfekt. Dagskráin er styrkt af Menningarráði Suðurnesja. Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

HRINGBRAUT • FIMMTUDAGSKVÖLD • KL. 21:30

RPSSTÖÐ

NÝR ÞÁTTUR • NÝ SJÓNVA

SUÐURNESJA MAGASÍN

Konur eru í miklum meirihluta í hópi kennara. Þær eru ekki hógværar og hafa vakið mikla athygli á launabaráttu sinni að undanförnu, meðal annars með stórum fundi á Ásbrú í vikunni. Þar hafa konur verið í framlínunni, alla vega hér suður með sjó. Ein þeirra, María Sigurðardóttir, kennari við Holtaskóla í Reykjanesbæ, hefur sagt starfi sínu lausu. Aðrir níu kennarar í skólanum hafa farið sömu leið og sagt upp. Staða grunnskólakennara er virkilegt áhyggjuefni. „Það er afskaplega erfitt að segja upp starfi sem maður elskar og þetta var erfitt skref að taka,“ segir hún. Hún segir kennara vilja laun miðað við menntun og ábyrgð. Það sem hefur komið fram er að verulegur launamunur er hjá kennurum grunnskóla og framhaldsskóla. Þeir fyrrnefndu eru hjá sveitarfélögunum en hinir hjá ríkinu. Það hlýtur að vera verulegt umhugsunarefni af hverju það er. Í blaðinu er grein frá foreldrum þar sem þeir lýsa yfir stuðningi við baráttu kennara og svo fjallar einn okkar baksíðupenna, Örvar Kristjánsson um málið í Lokaorðum sínum. Áfram konur!

Stofna Hollvinafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja Unnið er að undirbúningi á stofnun Hollvinafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja og verður fyrsti aðalfundur þess haldinn þriðjudaginn 29. nóvember næstkomandi klukkan 20:00 á sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Fjörutíu ára afmæli skólans var fagnað fyrr í haust. Bergný Jóna Sævarsdóttir, einn skipuleggjenda að stofnun félagsins, segir það hafa legið vel við að stofna Hollvinafélagið í tengslum við afmælið. „Undirbúningur að stofnuninni hefur gengið vel og standa vonir til að félagið verði mikil lyftistöng

bæði fyrir skólann og samfélagið á Suðurnesjum,“ segir hún. Meðal markmiða með stofnun Hollvinafélagsins er að styðja við uppbyggingu skólans og efla hag hans, efla og viðhalda tengslum eldri nemenda við skólann og að efla tengsl skólans við atvinnulíf og samfélag og að efla samfélagslega ábyrgð. Fyrrum nemendur og starfsmenn FS eru hvattir til að skrá sig í félagið og fylgjast með framgangi mála á Facebook síðu félagsins Hollvinir Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Vonir standa til að heimasíða félagsins líti dagsins ljós innan tíðar.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, sími 421 0002, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www. vf.is og kylfingur.is

LÍFLEGUR OG FJÖLBREYTTUR ÞÁTTUR Suðurnesjamagasín Sjónvarps Víkurfrétta er nýr þáttur byggður á gömlum grunni og sýndur vikulega á fimmtudögum á sjónvarpsstöðinni Hringbraut kl. 21:30. Í þætti vikunnar förum við á æfingu með köfurum frá Björgunarsveitinni Suðurnes í Njarðvíkurhöfn. Við förum einnig í Voga og hittum þar skemmtilega stelpu sem er miðpunkturinn í nýjum smásögum. Á bókasafninu í Reykjanesbæ skoðum við sýningu um Jamestown-strandið árið 1881. Unukvöld var haldið að Útskálum um síðustu helgi og við vorum þar. Jólastjörnur af Suðurnesjum hittust í Hljómahöll og ræddu við okkar fólk. Þá fáum við fréttir af Suðurnesjum í snörpum fréttapakka. Suðurnesjamagasín Sjónvarps Víkurfrétta er vikulegur magasínþáttur sem lætur sér ekkert óviðkomandi á Suðurnesjum. Við erum því opin fyrir ábendingum um áhugavert efni í þáttinn. Sendið okkur línu á vf@vf.is

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA NÚ Í HÁSKERPU Á HRINGBRAUT


-

-25%

AF ÖLLUM LJÓSUM

ÚTI- OG INNISERÍUR, AÐVENTULJÓS, ÚTI- OG INNILJÓS

byko.is

TENGDU SAMAN MARGAR SERÍUR AUÐVELT AÐ PANTA Á BYKO.IS

SKREYTUM SAMAN

Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/ eða myndabrengl. Tilboð gilda til 28. nóvember.

TIL 28. NÓV.


8

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 24. nóvember 2016

„Umræðan er mikilvæg. Þar gegna fjölmiðlar stóru hlutverki í að hjálpa okkur með að vekja athygli á þessu og skapa umræðu í samfélaginu. Svo að reyna að rannsaka hvernig og hvar þetta gerist“ Sigurbjörg Ólafsdóttir starfar sem bílstjóri hjá Eldsneytisafgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli. Sigurbjörg hafði unnið við ýmis störf og átt erfitt með að ná endum saman þegar hún ákvað árið 2007 að taka meiraprófið og reyna fyrir sér sem atvinnubílstjóri. Hún fór í „karla“-starf en hún sagði það betur borgað í viðtali við VF.

Kynbundinn launamunur hefur aukist á síðustu tveimur árum ●●samkvæmt könnun Gallup fyrir Flóabandalagið

Kynbundinn launamunur hefur aukist frá árinu 2014, úr 12,4% í 13,7% innan Flóabandalagsins og segir Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis það vera mikið áfall. „Þetta er óþolandi og okkar mesta áhyggjuefni,“ segir Kristján við Víkurfréttir. Auk VSFK eru Efling stéttarfélag, verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði og Stéttarfélag Vesturlands í Flóabandalaginu.

Hildur Björk Pálsdóttir hildur@vf.is

Kristján segir það vera ólíðandi að kynbundinn launamunur skuli yfir höfuð vera til. „Því að við gerum bara einn kjarasamning fyrir bæði kyn. Við höfum mikið velt fyrir okkur hvar þetta gerist. Gerist þetta í samtölum á milli vinnuveitanda og starfsmanna? Er launaskriðið allt að fara á karlana? Ég veit það ekki en mér finnst þetta óþolandi og við eigum bara mjög erfitt með að horfa á þessa staðreynd,“ segir Kristján. Eruð þið með einhverjar hugmyndir að því hvernig þið getið útrýmt kynbundnum launamun hjá ykkar félagsmönnum? „Umræðan er mikilvæg. Þar gegna fjölmiðlar stóru hlutverki í að hjálpa okkur með að vekja athygli á þessu og skapa umræðu í samfélaginu. Svo að reyna að rannsaka hvernig og hvar þetta gerist. Við gefum út einn launataxta fyrir bæði kynin, ekki sér karlaog konutaxta.“ Getur þá ekki verið að þetta liggi aðallega í störfum þar sem samið er um laun við hvern og einn starfsmann, en ekki notast við föst launakerfi? „Jú það er örugglega rétt. Við sjáum einmitt í niðurstöðum um þá sem hafa farið í launasamtal með atvinnurekanda sínum á síðustu 12 mánuðum, að 36% karla höfðu farið en 25% kvenna. Karlarnir eru duglegri að fara og óska eftir hærri launum, það gæti verið ein skýringin. Við sjáum að 60,7% þeirra sem fóru í launasamtal telja það hafa skilað sér hækkun umfram kjarasamningsbundinna hækkana.“

Það er líka áhugavert að sjá að þegar spurt er „hvaða heildarmánaðarlaun finnast þér sanngjörn fyrir þína vinnu“ þá svöruðu konur að meðaltali að þeim þættu 442.730 kr. sanngjörn laun en karlar svöruðu að þeim þættu 552.728 kr. sanngjörn laun fyrir sína vinnu. „Já, konurnar eru hógværari,“ segir Kristján. Væri möguleiki á að verkalýðsfélagið færi af stað með markaðs- og auglýsingaherferð sem hefði það markmið að hvetja konur til að krefjast hærri launa, hækka viðmiðið og minnka hógværðina? „Við erum hluti af heildarsamtökum, ASÍ, og færum ekki ein og sér í svoleiðis herferð. En við í Flóabandalaginu erum að láta gera þessar kannanir fyrir okkur sem sundurgreina vinnumarkaðinn, eftir stéttarfélögum, kyni, aldri, búsetu, starfshlutfalli, starfsaldri

og fleiru og getum þannig kannað stöðuna á okkar hóp.“ Hverjir voru helstu jákvæðu punktarnir úr könnuninni? „Einn af jákvæðustu punktunum í niðurstöðum könnunarinnar er sá að meðaltal heildarlauna er að hækka úr 372 þúsundum í 429 þúsund á milli ára, sem er 15,4% hækkun, á meðan taxtar hafa hækkað um 6,2%. Á sama tíma hefur verðbólga verið undir markmiði Seðlabankans, svo það var hægt að hækka laun umtalsvert án þess að verðbólgan ryki upp úr öllu valdi. Annað sem við vorum ánægð með er að svarhlutfallið í könnuninni var töluvert betra en áður og því fleiri marktæk svör. Fólk er meira tilbúið að tjá sig. Það er jákvætt. Atvinnuleysi hefur minnkað, það eru fleiri í vinnu og fleiri að fá hærri tekjur heldur en atvinnuleysisbætur.

Sá hópur sem fer til atvinnurekanda síns og biður um launahækkun umfram kjarasamninga fer ört stækkandi og hann er að ná árangri. Það er mjög gleðilegt. Það segir okkur að það er eitthvað launaskrið í gangi, ekki aðeins lágmarkshækkanir. Við hvetjum fólk til þess og getum aðstoðað og leiðbeint fólki hvernig bera eigi sig að í þeim efnum. Á stórum vinnustöðum þar sem stór launakerfi eru til staðar er það hins vegar erfitt. En þessir stóru launagreiðendur eru þó aðeins að mjakast áfram í því og átta sig á því að það þarf að halda mannskapnum, því vinnuaflið er hreyfanlegt. Það fer bara þangað sem það fær hærri laun og hika ekkert við það. Fólk leggur metnað í að fá sem hæst laun fyrir vinnuna sína, ég tala nú ekki um ef fólk er búið að mennta sig líka. Það eru góðar niðurstöður. Þeim sem eru í fleiri en einu starfi fer fækkandi. Það er jákvætt að að sjá, en

Áhugaverðar niðurstöður: • Meðaltal heildarlauna hækkaði úr 372.000 í 429.000 frá 2014 • Kynbundinn launamunur hækkaði úr 12,4% í 13,7% miðað við 100% vinnu frá 2014 • 51,8% finnst vinnuálagið sitt vera of mikið • 16% svarenda sem eru í VSFK hafa mjög miklar áhyggjur af fjárhagsstöðu sinni • Vinnustundafjöldinn hækkaði úr 42,2 í 43,1 klst. á viku að meðaltali • Fjöldi þeirra sem eru í fleiri en einu starfi fækkaði úr 19,2% í 17%

• Konum finnst 442.730 kr. í heildarmánaðarlaun sanngjörn fyrir sína vinnu í fullu starfi en körlum finnst 552.728 kr. sanngjörn heildarmánaðarlaun fyrir sína vinnu í fullu starfi. • 36% karla en 25% kvenna hafa farið í launasamtal með atvinnurekanda sínum á undanförnum 12 mánuðum • 60,7% þeirra sem fóru í launasamtal töldu það hafa skilað sér hækkun umfram kjarasamningsbundinna hækkana • 33,1% voru frá vinnu vegna eigin veikinda í einn til þrjá daga á undanförnum 3 mánuðum

sú tala fer úr 19,2% niður í 17% frá árinu 2014. Atvinnuleysi hefur minnkað rosalega hér á svæðinu og við erum að koma upp úr mikilli dýfu þar sem við vorum með mesta atvinnuleysið á landinu. En við sjáum að vinnumarkaðurinn hér er rosalega viðkvæmur. Staða fólks er viðkvæm og 16% svarenda í VSFK segjast hafa mjög miklar áhyggjur af fjárhagslegri stöðu sinni, sem er hæsta hlutfallið af þeim verkalýðsfélögum sem eru í Flóabandalaginu. Það segir mér að þó það hafi orðið sprenging í ferðamannaiðnaðinum þá er staða fólks viðkvæm. Við þurfum að styrkja hana og byggja upp,“ segir Kristján. Hvaða niðurstöður voru ykkur áhyggjuefni? „Rúmlega helmingi svarenda, eða 51,8% finnst vinnuálagið sitt vera of mikið. Það er áhyggjuefni og bendir til að það bitni á heilsu fólks sem sést í niðurstöðunum um veikindi starfsmanna. 15,1% aðspurðra voru frá vinnu í einn dag vegna eigin veikinda á síðustu þremur mánuðum og 18% voru frá vinnu í tvo til þrjá daga. Það segir okkur að samtals hafa 33,1% svarenda verið frá vinnu vegna eigin veikinda í einn til þrjá daga á undanförnum þremur mánuðum. Vinnustundafjöldinn er að hækka. Hann er nú að meðaltali 43,1 klukkustund á viku og hækkaði úr 42,4 frá árinu 2014. Fólk er orðið lengur í vinnunni og það er okkur áhyggjuefni. Það slær okkur líka að sjá hve margir eru í leiguhúsnæði, en það stafar reyndar að einhverju leyti af því að hingað er komið talsvert af erlendu vinnuafli sem fer beint í leiguhúsnæði. En leigan er rosalega há og oft eru aðstæðurnar ekki góðar, jafnvel margir í sama herberginu í illa útbúnum húsum eða íbúðum, jafnvel iðnaðarhúsum sem breytt hefur verið í svefnaðstöðu. Við reynum að berjast gegn því í samvinnu með ASÍ og BSRB og laga þessa stöðu fólks á markaðnum,“ segir Kristján að lokum.


Hvort sem þú vilt öryggi, sparneytni og lipurð í borgarsnúningana eða þægindi, rými og útsýni í skoðunarferðina þá er Honda CR-V fyrir þig. Bættu við hagstæðu verði og 5-stjörnu öryggi og þú sérð heildarmynd hagkvæma borgarjeppans sem hefur rakað að sér verðlaunum í öllum heimsálfum. Heildarmyndin endurspeglast í háu endursöluverði og verðlaunum sem áreiðanlegasti bílaframleiðandi heims í tæp 10 ár í röð.

www.honda.is

Njarðarbraut 15 • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 7800 • www.bernhard.is


ræi?

10

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 24. nóvember 2016

EINLÆG SAMTÖL

FEÐGINA Á BÓK ●●Steina Elena, 5 ára stúlka úr Vogum, er að öllum líkindum yngsti höfundur jólabókaflóðsins í ár Útvarpsmaðurinn ástsæli Guðni Már Henningsson og Steina Elena, fimm ára dóttir hans, sendu á dögunum frá sér bókina Það er rafmagnslaust hjá selnum. Bókin geymir samtöl þeirra feðgina um lífið og tilveruna síðan Steina var tveggja ára gömul. „Ég var orðinn svolítið aldraður þegar ég eignaðist Steinu og vildi skilja eftir minningar fyrir hana um sig og pabba sinn. Ég kunni ekkert annað ráð en að skrifa sögurnar í tölvu en af því að þær geta klikkað setti ég þær á Facebook,“ segir hann. Þar fékk Guðni góð viðbrögð við sögunum og fólk fór að þrýsta á hann að gefa þær út á bók. „Þá fór ég að velta því fyrir mér hvers konar bók það yrði eiginlega og hver myndi lesa hana. Þetta eru eiginlega bara minningar um samtölin okkar,“ segir hann. Fyrst voru skrifin aðeins hugsuð fyrir Steinu en þegar útgefandi hafði samband við Guðna og bauðst til að sjá um allt sem útgáfunni fylgdi ákvað hann að slá til. Bókin er gefin út hjá Herðubreið sem er í eigu Karls Th. Birgissonar, sem þau feðgin kalla

Kalla. Steina útskýrir fyrir blaðamanni Víkurfrétta að það sé ekki Kalli á þakinu, heldur annar Kalli sem búi á Íslandi. „Fyrst var þetta hugsað fyrir hana en síðan fór ég í annan útgangspunkt því hún svaraði svo skynsamlega og skemmtilega. Þegar það kom eitthvað óþægilegt upp í samræðunum þá skipti hún strax yfir í það sem við vorum að tala um áður. Þetta var svo skemmtilegt að við héldum þessu bara áfram og Steina vissi allan tímann að ég væri að skrifa samtölin okkar niður.“ Bókin var gefin út í byrjun nóvember og að sjálfsögðu var útgáfupartýið haldið í Húsdýragarðinum þar sem selirnir búa. Steina er að öllum líkindum yngsti höfundur jólabókaflóðsins í ár. Hún er búin að læra stafina og hefur þegar áritað nokkur eintök. Samtölin í bókinni fjalla um ýmsar pælingar Steinu, eins og til dæmis hvað kóngar geri á daginn og hvort Andrés Önd hefði átt að vera stelpa. Bókinni hefur verið dreift á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi og hefur salan gengið vonum framar.

Feðgin í Vogum, þau Steina Elena og Guðni Már Henningsson sendu á dögunum frá sér bókina Það er rafmagnslaust hjá selnum. Bókin geymir einlæg samtöl þeirra síðustu þrjú árin. VF-mynd/hilmarbragi

SAGA ÚR BÓKINNI:

STEINA OG ENDURNAR Steina Elena hefur mikinn áhuga á bílum. Þau pabbi fara oft á bílasölur að skoða bílana sem þar eru til sölu. Oftast leita þau að bleikum bílum en finna sjaldan. Pabbi gjóar þó augunum á stóra bíla sem eyða miklu bensíni en Steinu finnst lítið í þá varið. Steina hefur skoðun á hlutunum. Í dag fóru þau að skoða bíla. Enginn bleikur á staðnum. Þá sagði Steina: Ég veit hvaða tegund er best. Það eru bláir bílar þó að þeir séu ekki fallegastir. Eru bláir bílar bestir? spurði pabbi og leit á einn silfurgráan bensínhák. Hvernig veistu að þeir séu bestir? Ég veit það bara, svaraði Steina. Þau pabbi óku um á bláum, eldgömlum og pínulitlum jeppa. Líklegast var Steina að sýna pabba sínum stuðning í bílamálum. Steina og pabbi óku burt frá bílasölunni og niður að höfn. Sjáðu pabbi! Þarna eru endur. Þær eru svo fallegar. Þær fljúga öðruvísi en ég! Getur þú flogið? spurði pabbi. Já, ég get það. Endurnar fljúga svona, sagði Steina og sveiflaði höndunum í bílstólnum sínum. -En ég flýg

svona, bætti hún við og sveiflaði höndunum. Pabbi gat ekki séð nokkurn mun á þessum sveiflum. Og hvert flýgur þú? Út í geim. Ertu ekki bara að gabba mig? spurði pabbi. Steina svaraði: - Pabbi. Elskar þú mig? Já, ástin mín. Ég elska þig. Þá skaltu bara trúa mér. En pabbi, hvað er lögræðifingur? Lögræðifingur? Nú veit ég ekki. Ég ætla að verða lögræðifingur þegar ég verð stór. Og eiga bláan og bleikan bíl. Það skaltu gera, Steina litla. En af hverju viltu verða lögræðifingur? Þeir tala svo mikið og það er vinnan þeirra. Þeir mega tala svona mikið þegar þeim dettur eitthvað í hug. Líklegast var þetta rétt hjá Steinu litlu. En…, sagði pabbi, útvarpsfólk talar nú líka mikið. Já, þau gera það, svaraði Steina. - En þau eiga bara gamla og ljóta bláa bíla. Nú förum við heim, Steina litla, sagði pabbi. Það skulum við gera, pabbi minn, sagði Steina og sveiflaði höndum eins og endur gera.

OPINN ÍBÚAFUNDUR UM SKIPULAGSMÁL Bergi Hljómahöll miðvikudaginn 30. nóvember kl. 17:00 -19:00. - Landsnet kynnir Suðurnesjalínu 2 - Kynning á endurskoðuðu aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2015-30

Guðfinnur Sigurvinsson látinn Guðfinnur Sigurvinsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Keflavík er látinn, 80 ára að aldri. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut þann 16. nóvember, eftir stutt veikindi. Guðfinnur lætur eftir sig eiginkonu og fimm uppkomin börn. Guðfinnur var fæddur í Keflavík 6. jú lí 1936 og sleit þ ar barnsskónum. Hann var meðal þeirra e r f y r s t út skrifuðust frá Gagnfræðaskóla Kef lavíkur en hann lauk síðar prófi frá Samvinnuskólanum. Guðfinnur var ætíð virkur í fél agslíf i og var öflugur frjálsíþróttamaður. Hann lék á klarinett og var meðal stofnenda Lúðrasveitar Keflavíkur. Guðfinnur stundaði um tíma verslunarrekstur við Túngötu í Keflavík, ásamt Agnari bróður sínum og Sigurði Eyjólfssyni. Síðar varð hann umsvifamikill fasteignasali í Keflavík, en hann rak fasteignasölu ásamt Vilhjálmi Þórhallssyni. Meðal annarra starfa má nefna að hann starfaði sem skrifstofustjóri hjá Hraðfrystihúsi Keflavíkur (Stóru milljón) í nokkur ár. Guðfinnur settist fyrir Alþýðuflokkinn, sem aðalmaður í bæjar-

stjórn Keflavíkur árið 1976 og þjónaði bæjarfélaginu sem slíkur sleitulaust til ársins 1994. Árið 1986 leiddi Guðfinnur Alþýðuflokkinn til sigurs í bæjarstjórnarkosningunum þegar flokkurinn fékk hreinan meirihluta. Guðfinnur var forseti bæjarstjórnar frá 1986 til 1988, þá varð hann bæjarstjóri og gegndi því embætti til ársins 1990. Í gegnum árin sat Guðfinnur einnig í bæjarráði og var um tíma formaður Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Guðfinnur var um skeið í Varnarmálanefnd Utanríkisráðuneytisins. Síðar hóf hann störf sem deildarstjóri hjá Varnarliðinu. Hann lauk starfsferli sínum sem aðstoðarflugvallarstjóri í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann gegndi fjölda trúnaðarstarfa í samfélaginu. Var félagi í Málfundafélaginu Faxa og Lionsklúbbs Keflavíkur, var um árabil stjórnarmaður og formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja og um skeið stjórnarmaður í Kaupfélagi Suðurnesja. Útför Guðfinns Sigurvinssonar verður gerð frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 24. nóvember og hefst athöfnin klukkan 13.


Við eigum afmæli! Glæsileg afmælistilboð

-

Gildir frá

70%

25. nóvember*

ATH! aðeins 2 kippur á mann

-

72% -

50% ATH! aðeins 2 pk. á mann

Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl

99

299

kr. stk.

525

Provamel möndlumjólk kókos, bio

verð áður 349 kr. kippan

Papco Fifa WC 12 rúllur

Coke kippa 4x2 lítrar

verð áður 999

kr. pk.

-

verð áður 1049

24%

-

ATH! aðeins 2 stk. á mann

-

ATH! aðeins 1 pk. á mann

50% ATH! aðeins 2 pk. á mann

50%

599

kr. kg

Krónu kjúklingur, ferskur 1/1

verð áður 796 -

199

kr. kg

Plómur 1 kg

verð áður 399

125

kr. stk.

Dan Cake Jólarúlluterta

50%

1180

kr. pk.

Neutral Þvottaefni 5,27 kg

verð áður 249

*Afmælistilboðin gilda frá 25. nóvember og á meðan birgðir endast í Krónunni Fitjum

verð áður 2360


289

115

kr. 250 g

kr. 1 kg

ES Kakó 250 g

179 kr. 500 g

298

Heima Smjörlíki 500 g

Heima Suðusúkkulaði 300 g

79

ES Sykur 1 kg

kr. 1 kg

ES Hveiti 1 kg

279

kr. 300 g

kr. 700 g

Bónus Síróp 700 g

u ð a k Ba Bónus Með

139 kr. 24 stk.

ES Bökunarpappír 24 arkir

d R E V A M A S nd allt

425g

um la

98

1á 0rúllmu

úin Verum við öllu b

98

kr. 0,5 l

kr. 330 ml

Víking Hátíðarblanda 0,5 l

Ceres Jóla Hvítöl Danskt, 330 ml

í vetur

279 kr. 10 m

598 kr. pk.

998 kr. pk.

298 kr. stk.

198

Jólapappír 70 cm breidd, 10 m

Mannbroddar 2 stk. í pakka

Mannbroddar 4 stærðir, 2 stk. í pakka

Bic Kveikjari Stór

Kubbakerti 12x6 cm, rautt eða hvítt.

Verð gildir til og með 27. nóvember eða meðan birgðir endast

kr. stk.


Takmarkað magn

Verð áður

98 3.7 kr. kg

skilar til viðskiptavina 3.198 kr. kg

Nautalundir Þýskaland, frosnar Verð áður 3.798 kr. kg

ólöglegri gjaldtöku ríkisins við útboð á nautakjötskvóta til innflutnings.

GOTT VERÐ Í BÓNUS 98% kjöt

RJÚPUR 898

Rjúpnabringur, 4 stk. Bretland, 345 g, frosnar

kr. 345 g

198 kr. 400 g

Bónus Rifsberjahlaup 400 g

Pipar

u t r ö j H

425g

398 kr. 425 g

Gille Piparkökur 425 g

2.098 kr. kg

698 kr. 375 g

Kalkúnabringa Þýskaland, frosin

Rjúpa Bretland, 375 g, frosin

2í k,a3sskag

695 kr. 2,3 kg

Robin Klementínur Spánn, 2,3 kg

tt. Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00


14

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 24. nóvember 2016

ÞRJÁR

JÓLA-

STJÖRNUR

AF SUÐURNESJUM ●●Koma fram á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar í Laugardalshöll

Guðrún Lilja Dagbjartsdóttir, Perla Sóley Arinbjarnardóttir og Sesselja Ósk Stefánsdóttir eru meðal þeirra tólf sem komust í úrslit í söngkeppninni Jólastjarnan 2016. Þættir um keppnina hafa verið sýndir á Stöð 2 og verður úrslitaþátturinn í kvöld. VF-mynd/dagnyhulda

Þrjár ungar og hæfileikaríkar söngkonur af Suðurnesjum taka þátt í söngkeppninni Jólastjörnunni 2016 á Stöð 2. Þetta eru þær Guðrún Lilja Dagbjartsdóttir, 9 ára úr Grindavík, Perla Sóley Arinbjörnsdóttir, 16 ára úr Reykjanesbæ og Sesselja Ósk Stefánsdóttir, 10 ára úr Reykjanesbæ. Tæplega 200 ungir söngvarar skráðu sig til leiks í keppnina í ár og voru tólf bestu valdir til að taka þátt í úrslitunum. Undanfarna tvo fimmtudaga hafa verið sýndir þættir á Stöð 2 þar sem söngvararnir syngja fyrir dómnefnd sem skipuð er þeim Björgvini Halldórssyni, Jóhönnu Guðrúnu og Gissuri Páli. Úrslitaþátturinn verður sýndur í kvöld, fimmtudagskvöld. Allir söngvararnir í keppninni koma fram á jólatónleikunum Jólagestir Björgvins sem fara fram í Laugardalshöll 10. desember.

Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@vf.is

Eignaðist marga vini

Sesselja Ósk komst einnig í úrslit í Jólastjörnunni í fyrra. Þá fengu þátttakendur einnig að syngja með á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar svo hún er heldur betur reynslunni ríkari í ár. Sesselja segir það hafa verið mjög skemmtilega reynslu að vera með í bæði skiptin. „Það er svo gaman að hitta alla krakkana, syngja á sviðinu, sjá áhorfendurna og vera með.“ Hún hefur eign-

ast marga vini í Jólastjörnunni og er búin að æfa sig vel síðan í keppninni í fyrra. Sesselja syngur nær öllum stundum og æfir sig stundum heima með bróður sínum sem þá leikur undir á gítar. „Stundum hlusta ég á lög og syng með og syng með mömmu minni.“ Hún segir það hafa verið pínu stressandi að syngja á stóra sviðinu í Laugardalshöll í fyrra en að allt hafi gengið vel.

Syngur á hverjum degi

„Þetta var mjög gaman og gekk vel,“ segir Guðrún Lilja, sem söng lögin Make you feel my love og Everybody loves a lover í undanúrslitum keppninnar. Hún hefur lært á píanó og sótt

nokkur söngnámskeið. Þrátt fyrir ungan aldur er Guðrún Lilja orðin nokkuð reynd söngkona og hefur komið fram opinberlega með pabba sínum, Dagbjarti Willardssyni. Skemmtilegast finnst þeim feðginum að syngja saman lagið Hallelujah eftir Leonard Cohen. Guðrún hefur alltaf haft gaman af því að syngja og syngur heima á hverjum degi.

fá að taka þátt.“ Perla hefur sungið síðan hún man eftir sér og er nýbyrjuð að læra klassískan söng við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Aðspurð hvort hún ætli að leggja sönginn fyrir sig í framtíðinni segir hún ljóst að hún muni alltaf verða syngjandi, hvort sem það verði inni á baðherbergi eða á stórum tónleikum. „Ég bara veit það því söngurinn er í hjartanu mínu.“

Söngurinn er í hjartanu

Nánar verður fjallað um söngkonurnar í sjónvarpsþættinum Suðurnesjamagasíni sem sýndur verður á Hringbraut í kvöld klukkan 21:30. Þátturinn verður einnig aðgengilegur á vef Víkurfrétta, vf.is.

Perla Sóley hefur sent inn myndbönd í keppnina síðan hún var tólf ára og varð mjög glöð að komast í úrslitin í ár. „Þetta eru svo flottir tónleikar og draumur fyrir stelpu sem elskar að syngja að fá að vera með svo ég er ótrúlega spennt að

Snjall forritari óskast Dacoda leitar að öflugum framendaforritara í fullt starf til að sinna uppsetningu á nýjum vefum í vefumsjónarkerfið Dacoda CMS og að viðhalda vefum fyrir viðskiptavini okkar.

Helstu kröfur Góð þekking og reynsla af HTML/CSS, Javascript, C# og SQL Hæfileikar til að vinna sjálfstætt og í teymi Góðir samskiptahæfileikar Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun

Dacoda er staðsett í Reykjanesbæ og hefur starfað frá árinu 2002. Fyrirtækið framleiðir hugbúnaðarlausnir sem eru í notkun hjá fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum. Ef þú ert rétta manneskjan, sendu okkur línu á starf@dacoda.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Júlíus, framkvæmdastjóri Dacoda í síma 555 7517 eða julli@dacoda.is.


LENGRI AFGREIÐSLUTÍMI UM HELGINA

Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl, úrval getur verið mismunandi milli verslana.

Húsasmiðjan Reykjanesbæ

Opið laugardag 26. nóvember kl. 10 - 16 (Timbursala 10-14) Opið sunnudag 27. nóvember kl. 11 - 15 (Timbursala lokuð)

Húsasmiðjan 20 ára í Reykjanesbæ

20% afsláttur

af ÖLLUM vörum í nóvember

Gildir til 30. nóvember

ARNA J T S A JÓL FLOTT G STÓR O

9 919 .990

af ÖLLUM seríum og jólaskrauti Byggjum á betra verði

w w w. h u s a . i s


16

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 24. nóvember 2016

FANNST

LYFJAIÐNAÐURINN

SPENNANDI ●●Halldís Thoroddsen er efnaverkfræðingur hjá ● alþjóðlegu lyfjafyrirtæki í Stokkhólmi. l Fær starf við hæfi þegar hún hefur prófað að vinna í öllum deildum fyrirtækisins.

Halldís Thoroddsen býr í Stokkhólmi en hún er efnaverkfræðingur að mennt og starfar hjá stóru alþjóðlegu lyfjafyrirtæki sem framleiðir lyf úr blóðplasma á sviði blóðmeinafræði, ónæmisfræði og gjörgæslu. Halldís er í stöðu þar sem hún prófar að vinna innan allra deilda fyrirtækisins og eftir 12-18 mánuði fær hún svo starf við sitt hæfi. Dagarnir eru því ansi fjölbreyttir, allt frá því að standa í framleiðslulínunni til skrifstofustarfa, en hún ferðast einnig á milli starfsstöðva fyrirtækisins víðsvegar um Evrópu. Ung ætlaði Halldís sér að verða leikkona, flugmaður eða skáld ef hún man rétt, en henni líkar þó mjög vel við þann stað sem hún er á í dag. Efst á lista hjá henni er að fara í bakpokaferðalag um Suður-Ameríku.

Hildur Björk Pálsdóttir hildur@vf.is

Hvernig líkar þér lífið í Stokkhólmi? Mér líkar mjög vel. Ég er búin að búa hérna í rúmt ár og er farin að þekkja til helstu staða borgarinnar býsna vel. Ég bý í hverfi sem heitir Hjorthagen sem er ekki svo langt frá miðbænum og ferðast til vinnu með neðanjarðarlestinni á veturna en þegar vel viðrar þá hjóla ég. Það tekur skemmri tíma. Hvernig kom þetta starf til? Ég kláraði master í efnaverkfræði frá Chalmers háskóla í Gautaborg vorið 2015 og undir lok námsins kynntist ég lyfjaiðnaðnum, sem mér fannst mjög spennandi. Á sama tíma sá ég þetta starf auglýst og sótti um. Hvað lærir maður í efnaverkfræði? Þegar ég byrjaði hafði ég ekki hugmynd, en vissi að það var mikil stærð-

fræði og efnafræði svo ég ákvað að prófa. Í grunnnáminu lærir maður mest þessa algengu verkfræðikúrsa, stærðfræði, eðlis- og efnafræði. En í mastersnáminu og á lokaárinu í grunnáminu er mikil áhersla á efnaferla og hönnun þeirra, t.d. olíuframleiðsla og lyfjaframleiðsla. Þar sem Svíar eru frekar umhverfisvænir var það mikið áhersluefni þegar maður lærði um hönnun efnaferla, t.d. hvaða efni eru umhverfisvæn til notkunar, hvernig á að meðhöndla úrganginn o.s.frv. Geturðu lýst venjulegum degi hjá þér í vinnunni? Í hverju felst starfið þitt? Starfið felst í því að prófa að vinna innan allra deilda fyrirtækisins og svo að því loknu fæ ég stöðu við mitt hæfi. Octapharma er alþjóðlegt fyrirtæki, svo ég hef einnig ferðast mikið á milli starfsstöðvanna innan Evrópu. Enginn dagur er eins. Einn daginn er ég á framleiðslulínunni og annan daginn sinni ég venjulegum skrifstofustörfum. Svo það mætti eiginlega

Halldís í Gamla Stan.

segja að vinnan felist mest í því að læra á fyrirtækið og vinna að þeim verkefnum sem mér er úthlutað á hverri deild. Hvað fela „venjuleg skrifstofustörf “ í sér í þínu starfi? Oftast eru það skýrsluskrif og úrvinnsla niðurstaða úr rannsóknum og gilding á nýjum tækjum og ferlum. Geturðu sagt mér aðeins frá lyfjunum sem þið framleiðið úr blóðplasma? Hvernig er það gert? Lyfin sem við framleiðum eru til dæmis til þess að hjálpa fólki með ýmsa blóð- og ónæmissjúkdóma að lifa eðlilegu lífi. Sem dæmi er einn markhópur fyrirtækisins sjúklingar með dreyrasýki. Þá vantar prótein í blóðið sem gerir það að verkum að blóðið storknar ekki þegar þeir fá sár. Fái þeir ekki það prótein getur þeim blætt út. Lyfin eru framleidd úr blóðplasma, sem er vökvahluti blóðsins. Virku efnin í lyfjunum, sem eru hin

ýmsu prótein, eru aðskilin frá plasmanum með mismunandi aðskiljunarog hreinsunartækni. Hversu stórt er fyrirtækið sem þú vinnur hjá? í Stokkhólmi erum við um 760 sem vinnum hjá fyrirtækinu. En eins og ég nefndi áður þá er þetta alþjóðlegt fyrirtæki með höfuðstöðvar í Sviss, framleiðslu í Svíþjóð, Austurríki, Frakklandi, Þýskalandi og Mexíkó og svo eru söluskrifstofur út um allan heim. Ertu að vinna mikið með öðru fólki eða mikið ein? Ég vinn rosalega mikið með öðru fólki alls staðar að, sem er mjög gaman og fjölbreytt. Hver er uppáhalds borgin þín? New York og Madrid. Þar er fjölbreytilegt mannlíf og í Madrid er mjög góður matur.

Hver er draumur þinn? Ég á mér alltaf mjög stóra ferðadrauma. Bakpokaferðalag um Suður Ameríku er númer eitt á „to-do“ listanum. Svo væri gaman að fara einhvern tímann til Filippseyja og Indlands. Svo að skoða heiminn er einn draumur, en annars vil ég ná langt í þeim verkefnum sem ég tek mér fyrir hendur bæði persónulegum og úti á atvinnumarkaðnum. Hvað finnst þér skemmtilegast við daglegt líf í Stokkhólmi? Áttu þér uppáhalds stað? Mér finnst alltaf gaman að fara á kaffihús og tvö af mínum uppáhalds kaffihúsum eru Choklad Koppen í Gamla Stan og Kaffeverket í Vasastan. Ég sest oft þangað á köldum vetrardögum með góða bók. Einn af uppáhalds veitingastöðunum mínum er Shanti, indverskur staður sem er bæði á Södermalm og í Vasastan.

„Ég sest oft þangað á köldum vetrardögum með góða bók“

Halldís með hennar uppáhalds tvennu; heitt súkkulaði og kanilsnúð.

Íslenskir verkfræðingar í Stokkhólmi.

Halldís í heimsóknargallanum í framleiðslustöð Octapharma í Þýskalandi.


VILTU STARFA Í SLÖKKVILIÐI? Brunavarnir Suðurnesja bs (Reykjanesbær, Sandgerði,Garður,Vogar) auglýsa stöður í varaliði slökkviliðsins búsett á starfssvæði BS lausar til umsóknar • • • • •

Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Vera á aldrinum 20 - 30 ára, hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd. Hafa að lokinni reynsluráðningu aukin ökuréttindi til að stjórna: a) vörubifreið og b) leigubifreið. Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu. Umsækjendur þurfa að standast læknisskoðun og þrekpróf slökkviliðsins. Sakavottorð þarf að fylgja umsókn.

Kynningarfundur um starfsemi Brunavarna Suðurnesja verður haldinn Þriðjudaginn 29. nóvember 2016 á slökkvistöð Hringbraut 125 Reykjanesbæ, kl 18:00. Á fundinum verður starfssemi BS kynnt og hvert hlutverk varaliðs er, skyldur,störf, menntun og annað sem þarf til að fá ráðningu. Konur eru hvattar til að sækja um. Umsóknareyðublöð munu liggja frammi á fundinum. Eldri umsóknir skulu endurnýjast. Þeir sem hafa áhuga á að mæta á kynningarfund eru vinsamlega beðnir að staðfesta mætingu í síma 862-4054 eða omar@bs.is í síðasta lagi mánudaginn 28. nóvember fyrir kl. 17:00. Jón Guðlaugsson, Slökkviliðsstjóri.


18

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 24. nóvember 2016

Ragnheiður Eiríksdóttir eða Heiða trúbador.

Nýtt myndband og Karolinafund-söfnun fyrir sólóplötu kaf fitá r í bolla

kaffitár frá bý li í b

oll

áR fit

la bol

hátíð í bæ

býli frá

●●Heiða trúbador fer nýjar leiðir í tónlistarútgáfu

frá bý

a

kaffitá r

í li

a í boll ýli áb fr

r frá býli í bolla fitá kaf

ka f

Stöðvuðu fíkniefnasala ■■Lögreglan á Suðurnesjum handtók fíkniefnasala um síðustu helgi og lagði hald á nokkurt magn af fíkniefnum. Við húsleit, að fenginni heimild, fundu lögreglumenn á annað hundrað grömm af kannabisefnum. Tveir voru handteknir á staðnum en þeir höfðu verið að kaupa þar fíkniefni. Á öðrum stað var húsráðandi handtekinn en í híbýlum hans fundust meint kannabis og amfetamín. Þá handtók lögreglan einstakling, innan við tvítugt, sem var með fíkniefni í fórum sínum. Málið var tilkynnt til barnaverndar vegna ungs aldurs. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Tónlistarkonan Ragnheiður Eiríksdóttir eða Heiða trubador hefur gefið út nýtt myndband og hefur sett af stað söfnun á Karolinafund fyrir nýrri sólóplötu. Um er að ræða framleiðslu á sólóplötunni ‘Fast’ sem er fyrsta platan sem Heiða tekur upp og hljóðvinnur sjálf en platan var tekin upp í Berlín í fyrravor. „Á ‘Fast’ eru 10 lög og textar eftir mig, og ég kaus að reyna að útsetja og leika á öll hljóðfærin sjálf og það tókst næstum því. Það var einn snerill sem ég náði ekki að gera nógu vel og fékk ég því Andra Geir Árnason, trommuleikara í Hellvar og GlerAkri, til að leika á þennan sneril fyrir mig. Aðrir sem koma að plötunni eru Curver Thoroddsen sem hljóðblandaði í samvinnu við mig og Curver hljómjafnaði/masteraði svo plötuna,“ segir Heiða í tilkynningu. „Það eru tvær tengingar við Belgíu á plötunni. Annars vegar gerir belgíski Íslandsvinurinn Wim Van Hooste art-

workið á fram- og afturhlið plötunnar í samstarfi við mig, og hins vegar er lagið „Veerle” samið til belgískrar vinkonu minnar sem ég saknaði þegar ég komst ekki í brúðkaupið hennar í Belgíu. Báðum þessum Belgum kynntist ég á Icelandairwaves-hátíðinni fyrir nokkrum árum. Eina myndbandið sem gert hefur verið er við lagið ‘Veerle’ og ég tók það upp á myndavélina mína (Fuji-finepix) og vann á 10 ára gamlan Makka, og þetta er jafnframt fyrsta myndbandið sem ég geri að öllu leiti sjálf,“ segir Heiða jafnframt. Fjórða smáskífan af ‘Fast’ er Veerle og kemur út í 20 númeruðum eintökum af 7” vínyl-plötu sem er framleidd hjá vinyl.is. A-hliðin er Veerle album-version og B-hliðin er remix frá Curver. „Karónlinafund-söfnunin er nýstárlegur valkostur fyrir fólk sem langar í eitthvað mjög sérstakt. Það er hægt að fá lag samið um sig fyrir tæpan hundrað þúsund-kall. Þá þarf að

senda mér nafn og nokkur stikkorð og ég sem lag og texta og tek lagið upp fyrir kaupandann. Það má einnig kaupa sér eina, þrjár, fimm eða tíu vínylplötur, bóka Heidatrubador á tónleika eða í partý, og svo eru sérstök verðlaun fyrir ríka. Þeir geta keypt sér eina áritaða Heidatrubador-plötu fyrir 900 evrur, eða 117.000 krónur. Kannski er hægt að fjárfesta í menningu ef maður er nýbúinn að fá launahækkun og veit ekkert hvað maður á að gera við peninginn?,“ segir Heiða í tilkynningunni og bætir við: „Karolina-fund er eitthvað sem ég er að gera í fyrsta skipti og ég er mjög þakklát fyrir að það sé hægt að nýta sér þessa leið til að fá hjálp til að fjármagna verkefni á borð við þetta. Fyrirliggjandi er framleiðsla á vínil-plötum, og vonandi verða nokkrir geisladiskar og kassettur gerðar í leiðinni. Ég vona að sem flestir séu tilbúnir til að aðstoða mig við þetta skemmtilega ævintýri.“

Straumhvörf ●●Þriðjudaginn 22. nóvember 2016 kemur út fjórða ● sóló breiðskífa tónlistarkonunar Elízu Newman ● sem kallast Straumhvörf.

Tónlistarkonan Elíza Newman kom fyrst fram í sviðsljósið með hljómsveit sinni Kolrössu Krókríðandi er þær sigruðu Músiktilraunir með látum hér um árið. Hún hefur starfað við tónlist alla tíð síðan og er fjölhæfur listamaður bæði sem lagahöfundur og flytjandi. Elíza hefur farið víða í tónlistarsköpun sinni, og samið allt frá pönki og óperu til Eurovision-laga með smá stoppi á Eyjafjallajökli! Hún starfaði erlendis lengi og hefur gefið út fimm plötur með Kolrössu/Bellatrix, eina með hljómsveitinni Skandinavia og þrjár sóló plötur til þessa sem allar hafa hlotið lof gagnrýnenda bæði

heima og erlendis. Verður því Straumhvörf tíunda breiðskífan sem Elíza gefur út á ferlinum. Nýja plata Elízu Straumhvörf var samin og tekin upp í Stereohóli í Höfnum á Reykjanesi með upptökustjóranum Gísla Kjaran Kristjánssyni sem hefur getið sér gott orð sem upptökustjóri og lagahöfundur í London og Oslo siðastliðin ár. Hann hefur meðal annars unnið með listamönnum á borð við Roisin Murphy, Duffy, Katie Dennis og William Hut. Lögum Elízu á þessari plötu gæti verið lýst sem rokkskotnu indí poppi með þykkum strengja útsetningum, glitr-

andi ukulele, gargandi gítar og blokkflautu sólói! Í söngnum er Elíza upp á sitt besta, tvinnar saman angurværð, húmor og krafti eins og henni einni er lagið. Nú þegar hafa tvö lög af plötunni, Fagurgalinn og Af sem áður var, hlotið frábærar viðtökur og mikla útvarpsspilun á Íslandi. Straumhvörf kemur út 22. nóvember hjá Lavaland Records og verður fáanleg á netinu um allan heim, þar á meðal á tónlist.is, spotify og itunes. Smekkleysa SM dreifir plötunni á Íslandi.


r! Gleðilegar jólagjafi -20%

JÓLTILBOÐ Í REYKJANESBÆ

INTEL i3 FARTÖLVA Á ÓTRÚLEGU TILBOÐI ! Glæsilega hönnuð 15,6” fartölva með Intel i3 örgjörva og Intel HD Graphics 5500 grafíkkjarna. ACE-NXGCEED060

GLÆSILEG 24” SKJÁTÖLVA

5Á9ÐU.R9749.9955

JBL-PULSE2BLACK

ACE-DQB3NEQ001

OFURÞUNNUR 24” ASUS SKJÁR

2LE3D .H9ÁTA9LA5RI

STEELSERIES LEIKJAHEYRNARTÓL Siberia 200 eru hörkugóð heyrnatól fyrir tónlist og leiki með útdraganlegum hljóðnema.

11ÁÐ9UR.13999.9955

Borðtölva fyrir heimilið eða herbergið sem tekur lítið pláss. Intel i3 og FullHD IPS skjár.

JBL PULSE BLUETOOTH HÁTALARI Veðurvarinn Bluetooth hátalari með geggjuðum hljóm og Led lýsingu sem hreyifst með tónlistinni. Skemmtileg jólagjöf.

-20.000

24” FullHD skjár með HDMI tengi og innbyggða hátalara fyrir leikina, bíómyndirnar og Chromecast.

3Á2ÐU.R9369.9955

ASU-VX248H

BLACKWIDOW CHROMA X LEIKJALYKLABORÐ

-10.00 0

Eitt af okkar vinsælustu mekanísku LED lyklaborðum.

2Á9ÐU.R9399.9955

RAZ-RZ0301760300R3N1

GEFÐU ELDRI TÖLVUNNI NÝTT LÍF FYRR JÓLIN

1Á2ÐU.R9149.9955

Ekkert gerir meira til að fríska upp á eldri tölvur heldur en að setja stóran 480GB SSD disk með nægu gagnaplássi. COR-CSSDF480GBLEB

STE-51133

2Á2ÐU.R9249.9955

REYKJAVÍK · AKUREYRI · HÚSAVÍK · EGILSSTAÐIR · SELFOSS · KEFLAVÍK · AKRANES · www.tl.is

t

OFURTILBOÐ 49” 55”

ULTRA HD SNJALLSJÓNVÖRP Á ÓTRÚLEGU VERÐI Ultra HD 4K 3840 x 2160 upplausn. Pixel Precise Ultra HD myndvinnsla. Micro Dimming Pro baklýsing. 1800 Hz PPI. HDR Plus. Ambilight 3 – Þriggja hliða baklýsing. 20W RMS DTS Premium Sound hljóðkerfi. Android 5.1. (Lollipop). Innbyggður gervihnattamóttakari.

ÞRIGGJA HLIÐA BAKLÝSING

49”

TILBOÐ

134.995

2 GamePad stýripinnar að verðmæti 9.990 fylgja með.

VERÐ ÁÐUR 199.995

55” með Android

Philips 49PUS6561

Philips 55PUS6561

TILBOÐ

169.995 VERÐ ÁÐUR 239.995

VIÐ ERUM Í REYKJANESBÆ HAFNARGÖTU 90 - SÍMI 414 1740

ht.is 7 VERSLANIR UM LAND ALLT


20

VÍKURFRÉTTIR

VIÐBURÐIR BÓKAKONFEKT BÓKASAFNS REYKJANESBÆJAR Verður 30. nóvember kl. 19:45. Rithöfundarnir sem lesa úr nýútkomnum bókum eru Vigdís Grímsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson og Guðmundur Karl Brynjarsson. Allir hjartanlega velkomnir. JÓLAMARKAÐUR Handgerðir munir eftir heimafólk á jólamarkaði í Duus Safnahúsum laugardag og sunnudag kl. 12:00 - 17:00. LÉTTUR FÖSTUDAGUR Á NESVÖLLUM Föstudaginn 25. nóvember kl. 14:oo fjallar Ingrid Kuhlman um leitina að hamingjunni. Allir hjartanlega velkomnir.

fimmtudagur 24. nóvember 2016

Velja best skreytta húsið í Grindavík Rafverktakafyrirtækið TG Raf í Grindavík ætlar að hressa upp á jólaundirbúninginn í bænum þessi jólin með jólamarkaði og jólaleik. Leikurinn gengur út að það að dómnefnd velur best skreytta húsið í Grindavík og húsráðendur hljóta að launum 49 tommu Samsung flatskjá. Þriggja manna dómnefnd mun rúnta um bæinn eftir klukkan 20:00 þann 22. desember, ráða ráðum sínum og velja best skreytta húsið í Grindavík þessi jólin. Vinningurinn verður svo keyrður heim að dyrum í hádeginu á Þorláksmessu. Jólamarkaður TG Raf verður opnaður næsta laugardag, 26. nóvember. Þann

Jólastemning í Grindavík.

dag verður opið frá klukkan 12 til 15. Frá 28. nóvember til 16. desember verður jólamarkaðurinn opinn alla virka daga frá klukkan 15 til 18. Á

TENDRUN LJÓSA

Jólamarkaður í Duus safnahúsum

Ljósin á vinabæjartrénu á Tjarnargötutorgi verða tendruð kl. 17:00 á laugardag. Barnadagskrá, heitt kakó og piparkökur.

LAUS STÖRF

NJARÐVÍKURSKÓLI

Þroskaþjálfi

Umsóknum í ofangreint starf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf eða beint á Ráðningavefinn https://reykjanesbaer.hcm.is/storf/. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.

FÉLAGS-OG FAGGREINAFUNDUR

Jólalegt í Kompunni ●●Búið að opna árlegan jólamarkað Hinn árlegi jólamarkaður Kompunnar nytjamarkaðar var opnaður á dögunum. Á markaðnum kennir að venju ýmissa grasa af alls kyns jólavarningi. Starfsmenn Fjölsmiðjunnar taka á móti jóladóti allan ársins hring og þegar fer að líða að jólamarkaðnum eru vörurnar teknar fram og skoðaðar, verðmerktar og flokkaðar. Að sögn Þorvarðar Guðmundssonar, forstöðumanns Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum hefur verið mikil aðsókn að

markaðnum undanfarin ár enda hægt að gera þar góð kaup. „Viðskiptavinirnir gera sér einnig grein fyrir því að með því að versla við Kompuna eru þeir í raun að láta gott af sér leiða, gera góðverk í anda jólanna, því Fjölsmiðjan sem rekur nytjamarkaðinn Kompuna er atvinnusetur ungs fólks sem kemur úr ýmsum aðstæðum á leið sinni út í lífið,“ segir hann. Að venju er boðið upp á kakó og piparkökur og jólaandinn alls ráðandi fram að jólum í Fjölsmiðjunni.

verður haldinn í Krossmóa 4 Reykjanesbæ mánudaginn 28. nóvember kl. 18.00.

Vilja ekki gelda í Grindavík ■■Dýraverndunarfélagið Villikettir hefur óskað eftir samstarfi við Grindavíkurbæ og viðurkenningu á aðferðafræði sinni sem kennd er við TNR (Trap-Neuter-Return) eða Fanga-Gelda-Skila. Erindi félagsins um beiðni um samstarf um föngun og merkingu villikatta var tekið fyrir á síðasta fundi bæjarráðs Grindavíkur. Jafnframt var lagt fram minnisblað Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja um TNR aðferðafræðina. Bæjarráð Grindavíkur þakkar Dýraverndunarfélaginu Villiköttum fyrir erindið en hafnar þátttöku í verkefninu að þessu sinni.

■■Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt framkvæmdaleyfi til Mílu ehf. til að leggja ljósleiðara meðfram Reykjanesvitavegi að Reykjanesvita. Fyrir liggur leyfi Vegagerðarinnar og umsögn Minjastofnunar um legu lagnarinnar.

Súpa í boði félagsins. Stjórnin

Menningarkort Reykjanesbæjar komin í sölu

421 0001

■■Duus Safnahús óskuðu eftir þátttakendum í jólamarkaði sem halda skyldi 26. til 27. nóvember. Leitað var sérstaklega eftir vönduðu handverki og ýmsu slíku sem heimamenn hafa verið að fást við. Einungis takmarkað pláss var í boði og reynt var að koma sem flestum að, þannig að úrvalið yrði sem mest. Viðbrögðin voru mjög góð og öll borð fylltust strax og því miður komust ekki allir að en einhvers staðar verður að byrja. Um næstu helgi verður því spennandi fyrir bæjarbúa og gesti að koma sjá hvað þarna verður til sölu. Forsvarmenn í Duus-safnahúsum lofa jólastemningu og upplagt er að koma þarna við áður en haldið er á Tjarnargötutorg til að taka þátt í tendrun jólaljósanna á vinabæjartrénu sem hefst klukkan 17:00.

Reykjanesviti á ljóshraða

Dagskrá fundarins • Kjaramál - kjarakönnun FIT. • Lífeyrismál. • Önnur mál.

Auglýsingasíminn er

boðstólum verður ýmis jólavarningur, kaffi, smákökur og létt jólatónlist. Jólamarkaðurinn verður í húsi TG Raf að Staðarsundi 7.

Ákveðið var í fyrra að gefa út sérstök Menningarkort Reykjanesbæjar til að auðvelda íbúum og gestum að njóta menningar á hagkvæmari máta en annars væri. Menningarkortið fyrir árið 2017 er nú komið í sölu og kostar kr. 3.500 og er til sölu á þeim þremur stöðum sem þau gilda inn á, þ.e. Duus Safnahúsum, Rokksafni Íslands og Bókasafni Reykjanesbæjar. Kortin gilda sem bókasafnskort og aðgöngumiðar að hinum söfnunum tveimur

allt árið 2017 en einnig veita þau 10 % afslátt í safnbúðunum og afslátt á ýmsa viðburði, sýningar og þjónustu á vegum menningarhópa og stofnana í bæjarfélaginu. Nánari afsláttarkjör má lesa um á vef bæjarins jafn óðum og þau eru gerð. Kaupin á menningarkortinu eru fljót að borga sig því aðgangseyrir inn í Duus og Rokksafnið er kr. 1.500 fyrir hvert skipti og bókasafnskortið eitt og sér kostar kr. 1.850.

Sofnaði og ók utan í vegrið ■■Töluvert var um umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Suðurnesjum undir og um síðustu helgi. Síðdegis á sunnudag varð árekstur í Keflavík þegar bíl var ekið í veg fyrir annan. Ökumennirnir sluppu ómeiddir. Áður hafði annar ökumaður ekið út af á Vogavegi og kenndi hann meiðsla í öxl. Þá dottaði ökumaður sem var á leið eftir Reykjanesbraut til Reykjavíkur undir stýri og missti bílinn utan í vegrið. Fjarlægja þurfti bílinn með dráttarbíl og rúmlega 50 metrar af handriðinu lágu niðri eftir óhappið. Einnig var eitthvað um að ekið væri utan í eða á kyrrstæða mannlausa bíla.


fimmtudagur 24. nóvember 2016

21

VÍKURFRÉTTIR

SMÁAUGLÝSINGAR Óskast

Starfsfólk óskast

Kennara vantar húsnæði 30 til 60 fm eða stærra.Einhleypur og reyklaus. Upplysingar í síma 898-1409

Nesbúegg óskar eftir starfsfólki í eggjavinnsluna í Vogum. Vinnutími er frá 07:00 - 15:30.

SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER KL. 11:00 Fyrsti sunnudagur í aðventu. Messa og sunnudagaskóli með sameiginlegt upphaf. Félagar úr kór Keflavíkurkirkju leiða sálmasöng undir píanóleik Sævars Helga Jóhannssonar, sr. Eva Björk þjónar. Sunnudagaskólinn er í umsjón Systu, Helga, og Unnar. Súpa og brauð í boði eftir messu. SUNNUDAGSKVÖLD 27. NÓVEMBER KL. 20:00 Aðventukvöld, friður frelsarans. Eldeyjarkórinn syngur aðventu- og jólalög undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri flytur hugleiðingu. Sr. Erla og Eva Björk leiða stundina. MÁNUDAGSKVÖLD 28. NÓVEMBER KL 20:00 Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur á Landsspítalanum háskólasjúkrahúsi flytur erindi um sorgina, sorgarviðbrögð og fjölskylduna. Erindið er öllum opið. MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER KL. 12:00 Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar. Súpa og brauð í boði eftir stundina.

Áhugasamir sendi umsóknir á nesbu@nesbu.is Frekari upplýsingar veitir María í síma 690-5559

Vankaður og Velti bíl á slitnum sumardekkjum skorinn á höndum eftir ■■Mildi þykir að ekki fór verr þegar bifreið á slitnum sumardekkjum valt á Reykjabílveltu ■■Umferðarslys varð í vikunni þegar bifreið valt í Keflavík. Það varð með þeim hætti að ökumaður sem var að aka bifreið sinni norður Hringbraut missti stjórn á henni þegar hún tók að renna í hálku að ljósastaur. Hann reyndi að koma í veg fyrir óhappið en bifreiðin fór þá út af veginum, valt og endaði á hjólunum. Ökumaðurinn komst af sjálfsdáðum út úr bifreiðinni en var vankaður og skorinn á höndum. Hann var fluttur með sjúkrabifreið til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

www.bilarogpartar.is

Verið velkomin

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Auglýsingasíminn er

421 0001

S P E N N A N D I O G FJ Ö L B R E Y T T FR A M TÍ ÐA R STÖ R F Á K E F L AV Í K U R F L U G V E L L I

Við leitum að glaðlyndum, snyrtilegum og þjónustulunduðum einstaklingum til starfa við farþegaþjónusu. Helstu verkefni fela í sér að veita farþegum bestu þjónustu sem möguleiki er á, umsjón og eftirlit á þjónustuborðum og eftirlit með búnaði sem farþegar nota. Um vaktavinnu er að ræða.

Við leitum að þjónustuliprum og snyrtilegum einstaklingum til að sinna rútuakstri farþega á flughlaði, til og frá flugstæðum að flugstöðinni og umhirða bifreiða. Um vaktavinnu er að ræða.

Hæfniskröfur: • 20 ára aldurstakmark • Framúrskarandi þjónustulund • Góð kunnátta í ensku og íslensku, bæði í rituðu og mæltu máli. Þriðja tungumál er kostur

Hæfniskröfur: • Próf á hópferðabifreið er skilyrði • Fullnaðarskírteini fyrir B réttindaflokk í ökuskírteini • Vandvirkni og skipulag nauðsynleg • Góð kunnátta í ensku og íslensku

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.

Isavia hlaut gullmerki PwC fyrir launajafnrétti í jafnlaunaúttekt PwC 2015 og 2016. Við erum stolt af þeirri niðurstöðu og er hún í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað.

S TA R F S S T Ö Ð : K E F L AV Í K U R F L U G V Ö L L U R

UMSÓKNARFRESTUR: 11. DESEMBER , 2016

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla

sími 421 7979

V I LT Þ Ú V E R Ð A H L U T I AF GÓÐU FERÐALAGI?

FARÞEGAAKSTUR

Markaður með nýtt og notað. Hafnargötu 30, beint á móti Bústoð í Reykjanesbæ. Kaffi og meðlæti á staðnum. Opið frá 14 -17.

Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

nesbraut, austan við Kaffitár í Reykjanesbæ í síðustu viku. Ökumaður missti stjórn á bílnum í hálku og ók á ljósa- Myndin tengist fréttinni ekki beint. staur og valt. Ökumaðurinn og tveir farþegar voru komnir út úr bílnum þegar lögreglumenn á Suðurnesjum komu á vettvang. Fólkið var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Ökumaðurinn kvartaði undan eymslum en farþegarnir ekki. Bíllinn var mjög illa farinn eftir óhappið. Í síðustu viku valt bíll í Hvassahrauni og kenndi ökumaðurinn eymsla eftir óhappið. Öðrum bíl var ekið á grindverk og var óökufær á eftir en ekki urðu slys á fólki.

FA R Þ EG A ÞJ Ó N U S TA

Þjónusta

Arnar starfar við flugvernd á Keflavíkurflugvelli. Hann er hluti af góðu ferðalagi.

UMSÓKNIR: I S AV I A . I S/AT V I N N A

Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84


22

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 24. nóvember 2016

Björg tekur við af Þorsteini í Grindavík ●●Nýr sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Björg Erlingsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs hjá Grindavíkurbæ. Hún tekur við starfinu af Þorsteini Gunnarssyni, sem á dögunum var ráðinn sveitarstjóri Skútustaðahrepps. Björg fæddist í Reykjavík árið 1970 og ólst upp á Akureyri frá 1973. Hún er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og er með BA-próf í þjóðBjörg Erlingsdóttir, fræði frá Háskóla Íslands og master ásamt sérsviðsstjóri frístunda- námi í safnafræðum frá háskólanum í Lundi og menningarsviðs í Svíþjóð. Þá er hún einnig með diplómapróf hjá Grindavíkurbæ. MPA frá HÍ í opinberri stjórnsýslu.

Björg hefur undanfarin ár verið sviðsstjóri miðlunarsviðs Listasafns Íslands en áður var hún í sjö ár á Höfn í Hornafirði sem forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, framkvæmdastjóri Jöklasýningar og Jöklaseturs, auk þess að vera einn af framkvæmdastjórum sveitarfélagsins. Menningarmál, atvinnumál, ferðaþjónusta og félagsmiðstöð heyrðu undir hennar starf fyrir austan. Á vef Grindavíkurbæjar segir að ljóst sé að með Björgu fái bæjarfélagið í sínar raðir öflugan starfsmann með fjölbreyttan bakgrunn á menningar- og stjórnsýslusviði.

bílaleiga leitar eftir

starfsfólki

Við leitum að hressu, skemmtilegu og metnaðargjörnu starfsfólki til að vinna með okkur í ört vaxandi fyrirtæki í þjónustu við ferðamenn. Viltu starfa á vinnustað þar sem þú virkilega skiptir máli en ert ekki einn af 100? Leitað er að starfsfólki í HLUTASTARF yfir jól og til framtíðar. • Afgreiðsla bílaleigubíla • Þrif og umsjón bílaleigubíla Umsókn skal senda ásamt ferilskrá (CV) á:

STARF@FAIRCAR.IS

Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2016.

Skora á Grindavíkurbæ að veita ókeypis námsgögn ■■F o r e l d r a f é l a g G r u n n s k ó l a Grindavíkur hefur skorað á bæjarstjórn Grindavíkur að kosta námsgögn allra nemenda við skólann frá og með næsta skólaári. Ályktun foreldrafélagsins, þess efnis, var lögð fram á fundi bæjarráðs Grindavíkur síðasta þriðjudag og var í framhaldinu vísað til fjárhagsáætlunarvinnu. Í ályktun foreldrafélagsins er vísað til laga um grunnskóla þar sem segir að kennsla í skyldunámi í opinberum grunnskólum skuli veitt nemendum að kostnaðarlausu og að óheimilt sé að krefja nemendur eða foreldra þeirra um greiðslu fyrir kennslu, þjónustu, námsgögn eða annað efni sem nemendum er gert skylt að nota í námi sínu.

Ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu á laugardag Næstkomandi laugardag, á Tjarnargötutorgi klukkan 17, verða ljósin tendruð á jólatrénu sem vinabær Reykjanesbæjar í Noregi, Kristiansand, hefur fært íbúum bæjarins að gjöf í yfir 50 ár. Blásarasveit frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leikur jólalög við tréð áður en athöfnin hefst. Sendiráðsritari frá norska sendiráðinu á Íslandi afhendir tréð og forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, Guðbrandur Einarsson, veitir því viðtöku. Að venju kemur það í hlut grunnskólanemanda úr 6. bekk að kveikja ljósin á trénu og í ár er það

Bergur Leon Bjarnason úr Holtaskóla sem fær það skemmtilega hlutverk. Þegar ljósin hafa verið kveikt er von á góðum gestum, hinum eldhressu og skemmtilegu Skjóðu og Langleggi sem eru systkini jólasveinanna og eru alltaf í jólaskapi. Skjóðu finnst gaman að segja sögur og hún lumar á alls kyns undarlegum sögum beint úr Grýluhelli. Skjóða og Langleggur stýra loks dansi í kringum jólatréð og jólasveinar koma í heimsókn. Til að halda hita á mannskapnum verður boðið upp á heitt kakó og piparkökur.

OPNUNARTÍMI 8:00 TIL 20:00.

ZOLO // THAI KEFLAVÍK // FERNANDO´S // GLITBRÁ // GALLERÍ KEFLAVÍK // KÓDA PENNINN EYMUNDSSON // SI VERSLUN // SKÓBÚÐIN // VIBES // K SPORT // FJÓLA


ÍSLENSKA SIA.IS ICE 79477 11/16

GEFÐU FRÍ UM JÓLIN Gjafabréf Icelandair eru ávísun á ævintýri

Gjafabréfin okkar gilda fyrir alla, hvar sem er og hvert sem flogið er. Hvernig upplifun vilt þú gefa? Góða ferð – Icelandair.

Afþreyingarkerfi í hverju sæti

Hægt að nota og safna Vildarpunktum um borð


24

VÍKURFRÉTTIR

Umhverfisstofnun með fyrirvaralaust eftirlit Umhverfisstofnun hefur á síðustu dögum borist fjöldi ábendinga vegna kísilverksmiðju Unitedd Silicon í Helguvík, annars vegar um reyk frá verksmiðjunni og hins vegar um viðvarandi brunalykt. Fulltrúar stofnunarinnar hafa verið í sambandi við fyrirtækið til að fá nánari upplýsingar og hafa tvívegis á síðustu dögum farið í fyrirvaralaust eftirlit í verksmiðjuna til að fá betri og nákvæmari upplýsingar og einnig til að staðfesta umrædda lykt eða reyklosun. Aðfaranótt 11. nóvember síðastliðinn var kísilverksmiðja United Silicon í Helguvík gangsett, en um er að ræða fyrstu verksmiðju þessarar tegundar sem sett er upp á Íslandi. Umhverfisstofnun gaf út starfsleyfi fyrir verksmiðjuna í október 2014 og fer með eftirlit með starfsemi hennar. Fyrirtækið er í byrjunarfasa og búnaður enn í prófun. Skýringar á þeim reyk sem sést hefur má rekja til þess

að enn er verið að finna réttar stýringar á afsogi frá ofnum og reykhreinsibúnaði. Lyktin stafar fyrst og fremst af ófullkomnum bruna á lífrænum efnum (timburflís) þar sem ofninn er enn ekki komin á það stig að vera kominn í jafnvægi og ná því hitastigi þar sem von er á að lyktin eyðist. Loftgæðamælar umhverfis verksmiðjuna eru þrír og er staðsetning þeirra ákveðin út frá loftdreifilíkönum og vindlíkani eða vindrósum með það að markmiði að fanga örugglega þau mengunarefni sem berast frá starfseminni. Hægt er að fylgjast með loftgæðamælingum í rauntíma á heimasíðu orkurannsókna Keilis www.andvari. is. Í frétt á vef Umhverfisstofnunar segir að hún fylgist vel með umræddum mælingum og frá því að verksmiðjan fór í gang hafa mælingar á mengunarefnum aldrei farið yfir skilgreind viðmiðunarmörk vegna heilsuverndar manna.

Jólalýsing í Kirkjugarði Njarðvíkur Byrjað verður að kveikja á jólaljósum í kirkjugarði Njarðvíkur laugardaginn 26. nóvember kl. 13:00 Aðrir opnunartímar eru sem hér segir: Þriðjudaga frá kl. 17:30 – 19:00 (29 nóv., 6., 13., og 20. des.) Fimmtudaga frá kl. 17:30 – 19:00 ( 1., 8., og 15 des. ) Laugardaga frá 13:00 – 16:00 ( 26. nóv., 3., 10., og 17. des.) Síðasti opnunardagur er 20. desember.

VETUR! S805-2Y ál snjóskófla L:110cm

2.190 Rúðuvökvi -18°C 4 lítrar

740

Verum viðbúin!

S805-10D 135cm ál snjóskófla

2.595

S805-4L 170CM ál snjóskafa

2.190

Hálkusalt 5 kg

585 Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ

Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

fimmtudagur 24. nóvember 2016

Staða mála í Helguvík - Yfirlýsing frá United Silicon ●●Framleiðsla kominn í gang og lofthreinsivirki orðið virkt Í ljósi frétta undanfarna daga hafa verið uppi vangaveltur og getgátur er varða kísilverið í Helguvík. Getgáturnar byggja ekki á réttum upplýsingum sem getur oft verið misvísandi og leitt til misskilnings, þess vegna er betra að upplýsa um staðreyndir, svo umræðan geti átt sér stað á faglegum nótum, og ekki byggt á sögusögnum andstæðinga iðnaðar hér á landi. Fyrirtækið United Silicon hefur staðið við að ræsa kísilmálmverksmiðju sína í Helguvík síðustu vikuna og vill núna upplýsa íbúa svæðisins um stöðu mála. Því telur fyrirtækið rétt að skýra stöðu mála betur núna og í framtíðinni svo íbúar Reykjanesbæjar geti betur fylgst með því hver staða mála sé út frá réttum upplýsingum.

Vorum að brenna eldivið

Áður en framleiðsla var sett í gang (þegar flestar kvartanir komu frá íbúum), var verið að hita ofn félagsins með eldivið, á meðan verið var að baka rafskaut ofnsins. Þetta er eins og að kveikja í risa báli, eins og gert er t.d. á gamlárskvöld, og er reykurinn frá því ekkert hættulegur, enda förum við flest hiklaust með börn okkar á áramótabrennu. Á meðan þetta var gert var reykhreinsivirki verksmiðjunar ekki notað, því reykur frá svona venjulegu báli getur eyðilagt pokasíurnar í reykhreinsivirkinu. Þess vegna getur verið að bæjarbúar hafi fundið reykjarlykt sem minnir á kamínueld af þessum sökum þessa daga.

Mælingar í Helguvík

Símælar eru reknir af óháðum aðilum frá Orkurannsóknum sem mæla loftgæði við jaðar Helguvíkursvæðisins. Hægt er að nálgast raunmælingar

og gagnasöfn á slóðinni www.andvari.is. Rétt er benda á, að þeir sem vilja skoða raunmælingar á heimasíðunni kynni sér vel hvernig gögnin þar eru kynnt. Á forsíðu vefsíðunnar má í fljótu bragði gera sér grein fyrir loftgæðum á svæðinu. Til samanburðar er einnig hægt að fara á vef Umhverfisstofnunar og sjá loftgæði á öðrum stöðum á Íslandi (http://www. ust.is/einstaklingar/loftgaedi/maelingar/). Hér að neðan má til dæmis sjá samanburð á skjáskoti með gögnum frá Grensásvegi í nóvember 2016 og í Helguvík á sama tíma. Þegar gögn frá símælingu Orkurannsókna eru skoðuð kemur í ljós mikill toppur 9. nóvember. Þann dag var verið að kvarða mælitækin hjá Orkurannsóknum og var þá mæligasi dælt inn í þau beint til að tryggja að mælirinn væri rétt kvarðaður. Orkurannsóknir hafa verið beðin um að skrá inn á heimasíðuna, áður og eftir, að kvarðanir á mælum eru gerðar. United Silicon hf. hvetur íbúa Reykjanesbæjar til þess að kynna sér þau gögn sem vísað er til hér að framan, og samkvæmt þeim hafa gildi mengunarefna í útblæstri verksmiðjunnar aldrei farið yfir viðmiðunarmörk. Þá er félagið tilbúið til þess að veita Reykjanesbæ og öðrum nærliggjandi sveitarfélögum allar upplýsingar varðandi útblástur frá verksmiðjunni á hverjum tíma.

Framleiðsla kominn í gang

Framleiðsla kísilmálms er nú hafin og allur reykur frá framleiðslunni hefur farið í gegnum reykhreinsivirkið. Aðalviftur verksmiðjunnar hafa orðið fyrir truflun vegna rangrar forritunar í stjórnkerfi viftanna, sem hefur valdið

því að nokkur reykur barst frá sjálfu ofnhúsi verksmiðjunnar. Loftræstikerfi byggingarinnar höfðu slegið út síðla nætur og voru þau ekki sett inn nægjanlega snemma til að hreinsa reykinn sem lagði um og út frá byggingunni fram eftir morgni. Unnið er að endurbótum á loftræstikerfi byggingarinnar svo atvik sem þessi eigi sér ekki stað. Með hækkandi álagi á ofninn hækkar hitinn inni í ofninum sem leiðir til fullkomnari bruna á timburflís sem þar með eyðir mest allri kamínubrunalyktinni. Gert er ráð fyrir að ofninn verður kominn í full afköst í lok mánaðarins. United Silicon hvetur íbúa til að skoða vel síðu Orkurannsókna og mun fyrirtækið bæta úr þeim skorti á upplýsingum um rekstur félagsins til íbúa Reykjanesbæjar.

Við mengum öll

Félagið vill líka benda á, að engin sérstaklega hættuleg efni eru í sjáanlegu ryki frá verksmiðjunni. Þetta eru allt venjuleg steinefni eins og í kísilgrjóti, sem er algengasta steinefni í jarðskorpunni. Allir sem sópa stéttina heima hjá sér á heitum sumardegi, anda að sér sambærilegu ryki með sömu steinefnum. Höfum hugfast að við öll mengum smávegis daglega. Þegar við keyrum í bílum okkar eða flugvélar taka á loft kemur bæði ryk, köfnunarefnisoxíð (NOx) og brennisteinsoxíð (SO2), sem eru náttúrulega óholl fyrir líkamann en í litlu magni ekkert sérstaklega hættuleg. Þess vegna eru lögsett viðmiðunarmörk fyrir þessi efni og eins og þegar er borið saman við loftgæðismælingar á Grensásvegi, er kísilverksmiðjan ekkert að menga meira en venjuleg umferð gerir á venjulegum degi. Við notum flest bæði bíla og kísil á hverjum einasta degi og viljum hafa þessi gæði í lífi okkar. Flest notum við kísil að minnsta kosti fjórum sinnum á dag m.a. þegar við burstum tennurnar, þvoum okkur um hárið og þegar við ökum í vinnuna og við það slitna dekkin á bílunum okkar. Auk þess ættu umhverfisáhugamenn einnig að hafa í huga að yfir helmingur af öllum kísli, sem framleiddur er hjá United Silicon, fer til viðskiptavina okkar sem nota kísilinn í framleiðslu á sólarrafhlöðum. Þetta er líklega hreinasti orkugjafi í heiminum og við ættum að vera stolt af því að þessi vara er framleidd með hreinni orku í Reykjanesbæ.


fimmtudagur 24. nóvember 2016

25

VÍKURFRÉTTIR

Tímabundið leyfi til sölu skotelda í smásölu og leyfi til skoteldasýninga Lögreglan á Suðurnesjum

Foreldrar styðja kjarabaráttu kennara Kæru kennarar, Við, foreldrar, þekkjum, líkt og þið tilfinninguna sem fylgir vorinu. Skólinn fer í sumarfrí og við horfum glöð fram á álagsléttari daga með engu heimanámi, takmörkuðum heimalestri og bara almennu fríi. Að sama skapi þekkjum við, þessir sömu foreldrar, gleðina sem fylgir haustinu, með rútínunni sem við erum búin að þrá síðan um miðjan júlí. Börnin okkar komast aftur niður á jörðina og við getum aftur farið að barma okkur yfir skipulagsdögunum! Við, foreldrar sendum frá okkur þessa grein í dag því að ástandið sem upp er komið í kjarabaráttu kennara kristallast í einu orði. Dapurlegt. Ástandið er dapurlegt... en það er lýsingarorð á frumstigi. Eins og allir aðrir landsmenn þá gengum við í skóla og þáðum kennslu, fræðslu og leiðsögn frá kennurum, sem eins og þið, létu sér annt um menntun, velgengni og vellíðan okkar. Við höfum, líkt og aðrir, orðið fyrir áhrifum frá kennurum sem snertu á lífi okkar og með einum eða öðrum hætti stýrðu því í þann farveg sem það er í, í dag.

Samfélagið treystir kennurum

Við treystum kennurum fyrir því sem er okkur kærast. Börnunum okkar. Við treystum kennurum fyrir menntun barnanna og við treystum kennurum fyrir velferð þeirra á hverjum degi. Hvers virði eru kennarar og það sem þeir leggja til samfélagsins? Hvers virði er grunnurinn sem er lagður að framtíð barnanna okkar? Við teljum það morgunljóst að við getum ekki sett verðmiða á framtíð þeirra. Það eina sem við vitum er að okkur þykir hún vera ansi dýrmæt og viljum að okkar börn njóti leiðsagnar færustu fagmanna, færustu kennara, sem völ er á. „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ er íslenskur málsháttur

sem við rifjum upp þegar við horfum á bak einhverju sem við hefðum svo gjarnan viljað eiga eða hafa lengur. Því miður virðist stefna í að við, samfélagið, fáum að upplifa þetta á eigin skinni. Fréttir af fjöldauppsögnum kennara berast nú daglega, síðast í gærkvöldi. Hver veit hvaða fréttir við fáum í kvöld. Fréttir sem þessar gera ástandið dapurlegra. Dapurlegra... Það er sama lýsingarorð og áður, nú á miðstigi. Það er dapurlegra en orð fá lýst að fólkið sem við treystum fyrir framtíðinni, fyrir menntun barnanna okkar, skuli ekki hafa laun sem tekur mið af þeirri menntun og ábyrgð sem fylgir starfinu. Við, foreldrar á Suðurnesjum, skorum á samninganefndir að semja við grunnskólakennara. Við skorum á ráðamenn sem ákveða fjármagn til menntamála að standa við öll fögur orð sem hafa fallið um mikilvægi þessa starfs, um mikilvægi þess að halda í hæfasta fólkið í kennslu, um það hversu mikilvægt er að ábyrgð í starfi endurspeglist í launum. Dapurlegast -sama lýsingarorð, nú á efsta stigi- væri nefnilega ef við missum hæfileikaríku kennarana okkar í önnur störf. Við skorum á og óskum eftir að það verði séð til þess að íslensk æska, börnin okkar, fái að njóta þeirra ómældu hæfileika sem býr í mannauðinum sem er samankominn hér í dag. Við, foreldrar, sýnum kennurum stuðning í kjarabaráttu þeirra. Við viljum að þeim sé sýnd sú virðing sem þeir eiga skilið og förum fram á að þeim séu greidd laun í samræmi við menntun og ábyrgð. Laun sem við getum verið stolt af að þeir þiggi fyrir vinnu sína. Formenn Foreldrafélaga allra skóla í Reykjanesbæ

Jólaúthlutun

Upplýsingar til umsækjanda tímabundins leyfis fyrir sölu skotelda í smásölu og leyfis til skoteldasýninga frá og með 28. desember 2016 til og með 6. janúar 2017. Þeir aðilar sem hyggjast sækja um leyfi fyrir sölu skotelda í smásölu í Reykjanesbæ, Garði, Grindavík, Sandgerði og Vogum fyrir og eftir áramót 2016-2017, ber að sækja um slíkt leyfi til lögreglunnar á Suðurnesjum fyrir kl. 16:00, 8. desember 2016. Hægt er að nálgast umsóknirnar á logreglan.is og á lögreglustöðinni í Reykjanesbæ að Hringbraut 130. Einnig á lögreglustöðinni í Grindavík, Víkurbraut 25. Leyfi eru veitt að fullnægðum skilyrðum vopnalaga nr. 16/1998 og gildandi reglugerðar um skotelda. Athugið: • Umsóknaraðilar skila inn umsóknum 8. desember 2016, - til lögreglu að Brekkustíg 39, ásamt fylgigögnum. • Umsóknir um sölustaði sem berast eftir 8. desember 2016 verða ekki teknar til afgreiðslu. • Umsóknaraðilar skulu vera komnir með leyfin í hendur fimmtudaginn 22. desember 2016. • Óheimilt er að hefja sölu, nema söluaðilar hafi í höndum leyfisbréf frá lögreglu. • Söluaðilar sæki leyfisbréf á lögreglustöðina við Hringbraut fimmtudaginn 22. desember 2016, kl. 09:00. Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi: • Leyfi eru aðeins veitt fyrir sölu skotelda að fyrir liggi umsögn viðkomandi slökkviliðs til aðstöðu og sölu skotelda, pökkunar- og geymslustaði. Einnig liggi fyrir leyfi lóðareiganda, húseiganda eða húsfélags ef umsækjandi er ekki umráðamaður lóðar eða húsnæðis þar sem sala á að fara fram og staðfesting tryggingafélags vegna sölu, geymslu og notkun skotelda. • Ef fyrirhugað er að selja úr skúrum eða gámum, skal vera búið að ganga frá slíkum sölustöðum fyrir kl. 16:00, þriðjudaginn 20. desember 2016 svo lokaúttekt geti farið fram á aðstöðu og öryggisþáttum. Sölustaðir skulu vera minnst 25 fermetrar og búnir samkvæmt kröfum slökkviliðs viðkomandi sveitarfélags. Tilgreina þarf ábyrgðarmann fyrir sölustað, sem hefur sérþekkingu á skoteldum og hefur náð 18 ára aldri. Að gefnu tilefni skal vakin athygli á að sala og meðferð skotelda er einungis heimil á tímabilinu frá og með 28. desember 2016 til og með 6. janúar 2017. Gjald fyrir sölustað er kr. 5.000, skoteldasýningar er kr. 8.300 og greiðist við innlögn umsóknar hjá lögreglu. Reykjanesbær 22. nóvember 2016. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum.

Velferðasjóðs Suðurnesja

Opið verður fyrir umsóknir hjá Velferðasjóði Suðurnesja og Hjálparstarf kirkjunnar í Keflavíkurkirkju 29.nóvember - 1.des., 6. des. og 8.des. Opnunartími er frá kl. 09:00-12:00. Þeir sem hafa fengið greitt inn á kort (blátt Arionbankakort) geta sótt um jólaaðstoðina rafrænt á www.help.is. Allir þeir sem eru undir viðmiðunarmörkum eiga rétt á jólaaðstoð hjón, einstaklinga og barnafólk. Athugið ekki verður tekið við umsóknum eftir 8.desember 2016 það sem af er þessu ári. Afgreiðsla korta fer svo fram 15. desember 2016 milli kl. 09:00 og 12:00.

Auglýsingasíminn er

421 0001


26

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 24. nóvember 2016

EFNILEGIR LEIKARAR

Eva María Ómarsdóttir og Þórarinn Darri Ólafsson eru upprennandi leikarar sem fara bæði með tvö hlutverk í leikritinu Á stoppistöð sem nú er sýnt hjá Leikfélagi Keflavíkur. Hvaða hlutverk leikur þú í sýningunni Á stoppistöð? Ég leik strák sem heitir Adam sem er mjög hress en það er líka mjög auðvelt að gera hann pirraðan. Ég leik líka Steina sem er algjör stuðbolti og hjálpar sveitastráknum Bárði að falla inn í hópinn. Hefur þú áður tekið þátt í leiksýningu? Já, ég lék í Líf og friður sem var sett upp í Kirkjulundi árið 2015.

Fyrsta bernskuminningin? Ég sagði alltaf „tonky junki“ í staðin fyrir Kentucky. Uppáhalds nammi? Allt hlaup.

ÞÓRARINN

Uppáhalds bók? Mamma klikk.

DARRI ÓLAFSSON

Fallegasta náttúruperla á Suðurnesjum? Uppáhalds náttúruperlan mín er Gunnuhver.

Aldur? Ég er þrettán ára.

Uppáhalds sjónvarpsþátturinn? Leitin að upprunanum.

Fjölskylda? Pabbi minn heitir Ólafur Bragi Bragason, mamma mín heitir Gunnheiður Kjartansdóttir og systir mín heitir Sigfríður Ólafsdóttir.

Uppáhalds leikari? Jim Carrey, vegna þess að hann fyndinn og tekur hlutverkunum sem hann fær alvarlega.

Hvaða hlutverk leikur þú í sýningunni Á stoppistöð? Ég leik kennara sem heitir Jóhanna og hún er mikil brussa og er mjög hávær. Ég leik einnig nemanda sem heitir Natalía og hún er stelpa sem passar ekki alveg í hópinn en allir eru samt voða góðir við hana. Hún er samt algört spurningatröll og hún er svolítið úr tísku.

Áhugamál? Leiklist, dans og söngur. Fyrsta bernskuminningin? Alltaf þegar ég fékk skyr þegar ég var lítil klessti ég því í andlitið á mér ef ég vildi ekki meira.

Eva

Uppáhalds nammi? Súrt nammi, það er æði.

tir

María Ómarsdót Uppáhalds bókin? Hefur þú tekið þátt Þín eigin goðsaga. í leiksýningu áður? Já, ég lék í einni leiksýningu sem hét Líf og friður og var sett upp í Kirkjulundi Uppáhalds náttúruperla á Suðurnesjum? árið 2015. Brú á milli heimsálfa. Aldur? Uppáhalds sjónvarpsþátturinn? 12 ára en verð 13 þann 16. desember. The Vampire Diaries. Fjölskylda? Pabbi minn heitir Ómar Ólafsson, mamma mín Uppáhalds leikari? heitir Þórey Óladóttir og stóra systir mín heitir Amanda Seyfried vegna þess að hún er svo falleg og fyndin. Birta María Ómarsdóttir.

Fjölpóstur Fast hlutastarf við frágang og dreifingu á fjölpósti í Reykjanesbæ. Bréfberar Óskum eftir einstaklingum í Garði, Sandgerði og Vogum til að sinna bréfburði í 2-3 tíma alla virka daga (lengur á fimmtudögum). Hægt er að sækja um störfin á umsóknarvef Póstsins: umsokn.postur.is

Kennsla í bókagerð á Bókasafni Reykjanesbæjar Nánari upplýsingar veitir Anna Guðmundsdóttir í síma 8251140 eða í annam@postur.is

■■Norræn bókasafnavika var haldin í Bókasafni Reykjanesbæjar í síðustu viku og var þá boðið upp á bókagerðarnámskeið. Þar voru kenndar þrenns konar aðferðir til bókagerðar sem hægt er að búa til heima. Allir sem tóku þátt voru hvattir til að skrifa sögu um sína eigin framtíð í bækurnar. Meðfylgjandi myndir voru teknar á bókagerðarnámskeiðinu.


fimmtudagur 24. nóvember 2016

Reykjanesbær í samstarf við Nexis um heilsueflandi samfélag „Mikið og gott starf hefur verið unnið hér í Reykjanesbæ undanfarin ár og því má segja að grunnurinn sem við byggjum á sé góður. Þess vegna hef ég alla trú á því að þetta verkefni muni heppnast vel en það er mikilvægt að íbúar átti sig á að þetta er þeirra verkefni og að þeirra aðkoma er nauðsynleg fyrir framgang og árangur þess,“ segir Jóhann Friðriksson, lýðheilsufræðingur hjá Nexis heilsueflingu, en fyrirtækið hefur skrifað undir samning við Reykjanesbæ um verkefnastjórn verkefnisins Heilsueflandi samfélag. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, sem undirritaði samstarfssamninginn fyrir hönd Reykjanesbæjar, skrifaði á dögunum undir samning við Embætti landlæknis þar sem bærinn gerðist aðili að verkefninu. Stýrihópur hefur tekið til starfa en í honum sitja fulltrúar hagsmunaaðila, svo sem frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, grunn- og leikskólum, lögreglu og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, svo nokkrir séu nefndir. Ráðgert er að innleiðing á hugmyndafræði heilsueflandi samfélags og áætlunargerð í samræmi við hana hefjist fljótlega. Heilsuefling, eins og orðið ber með sér, gengur út á það að efla almenna heilsu íbúa með því að fyrirbyggja sjúkdóma, stuðla að forvörnum og veita stuðning til lífsstílsbreytinga. Heilsuefling tekur meðal annars til félagslegra, andlegra og umhverfislegra

Fjölmenningardagur Fjölskyldu- og jólahátíð í Bókasafni Reykjanesbæjar laugardaginn 26. nóvember kl. 15:30. Dagskrá: Sönghópur Suðurnesja syngur aðventu- og jólalög Íslenskar jólahefðir kynntar, jólasveinar mæta og taka lagið Kakó og íslenskt jólabakkelsi í boði Að fjölmenningar dagskrá lokinni verður kveikt á jólatrénu við Tjarnargötutorg kl 17:00. Kl. 13:30 Jólaföndur í Bókasafninu.

Intercultural Day A Family- and Christmas Festival at the Library of Reykjanesbær municipality on Saturday 26 November at 15:30.

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ og Jóhann Friðriksson, lýðheilsufræðingur hjá Nexis, undirrita samning um verkefnastjórn þess síðarnefnda með heilsueflandi samfélagi í Reykjanesbæ.

áhrifaþátta heilbrigðis og fólki gert kleift að hafa aukin áhrif á heilsu sína til góðs. Heilsuefling snýst ekki síður um að hafa möguleika á að velja hollt, óháð búsetu, aldri, kyni og félagslegri stöðu. Jóhann segir brýnast nú að koma stoðum undir verkefnið, sem áætlað er að taki um fjögur ár en mikilvægt er að tryggja að verkefnið skjóti rótum þannig að árangurinn sé varanlegur. Samstarfssamningurinn gildir í fimm mánuði og því þarf að vinna hratt. „Verkefni eins og þetta, að byggja

Samkvæmt lýðheilsuvísum Embættis landlæknis eru

Suðurnes frábrugðin landsmeðaltalinu er varðar eftirtalda þætti: Hærra hlutfall fullorðinna sem hæsta gildi á hamingjukvarða. Hærra hlutfall barna í 10. bekk hreyfir sig samkvæmt ráðleggingum. Lægri tíðni ölvunardrykkju fullorðinna. Hlutfallslega fleiri fullorðnir meta andlega heilsu sína slæma. Hlutfallslega fleiri fullorðnir reykja daglega. Hlutfallslega færri konur mæta í leghálskrabbameinsskoðun og brjóstamyndatöku.

upp heilsueflandi samfélag, snýst um langtíma markmið. Lykilþættir hér eru þeir að verkþættir séu vel skilgreindir, fjármagn sé tryggt og að allir eigi hlutdeild í verkefninu.“ Jóhann leggur áherslu á að það sé mjög mikilvægt að þeir sem verði fyrir áhrifum af verkefninu verði með í að stýra ákvörðunartöku. „Ég tel Reykjanesbæ og íbúa vera vel í stakk búna til að gera þetta og ég tel okkur geta notað þetta verkefni til þess að efla andann í sveitarfélaginu, samheldnina og lífsgæðin.“

Fá ekki að breyta bílgeymslum íbúðir

Starfsfólk Ráðhúss Reykjanesbæjar lætur gott af sér leiða og hvetur sem flesta til að mæta í góðgerðar-spinning. Ágóðinn rennur til Fjölskylduhjálpar.

Góðgerðar-spinning í þágu Fjölskylduhjálpar fram en sameiginleg niðurstaða var að halda góðgerðar-spinning. Þannig væri hægt að efla heilsuiðkun í samfélaginu og gera góðverk á sama tíma. Starfsfólk setti sig í samband við Sporthúsið og fékk þau í lið með sér. Spinningkennarar þeirra taka að sér að leiða tímann og frjálst er að spinna eins lengi og hver vill. Starfsfólk Ráðhúss Reykjanesbæjar hvetur alla til að mæta og njóta aðventunnar saman og að láta gott af sér leiða. Einnig er hægt að leggja inn á reikning í nafni Fjölskylduhjálpar, kt. 6801695789, reikningsnúmer 0121-15350005 og setja aðv.spi í skýringu.

Programme: The Suðurnes Vocal Ensamble sings Advent and Christmas carols Presentation of Icelandic Christmas traditions, the “Jóla“-traditions, and the Christmas Lads will visit and perform Hot chocolate and Icelandic baked goods for everyone Following the completion of the Multicultural Festival Programme the Christmas tree will be officially lit at its location on Tjarnargötutorg square at 17:00. At 13:30 everyone is invited to take part in a Christmas crafts event, the cutting and pasting of ornaments and decorations at the Municipal Library.

Dzień międzykulturowy Festiwal rodzinny i bożonarodzeniowy w Bibliotece miejskiej w Reykjanesbæjr, sobota, 26 listopada o godz. 15:30. Plan imprezy: Zespół muzyczny Suðurnes zaśpiewa piosenki adwentowe i świąteczne Islanndzkie tradycje bożonarodzeniowe, odwiedziny i piosenki mikołaji Kakao i islandzkie przysmaki Na koniec imprezy odbędzie się uroczyste zapalenie lampek na choince na placu Tjarnargötutorg o godz. 17:00. Godz. 13:30 przygotowanie świątecznych ozdów w Bibliotece miejskiej.

■■Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur synjað Sparra ehf. um að breyta átta bílgeymslum við Engjadal 6 og 8 í fjórar íbúðir. Fyrirspurn fyrirtækisins er synjað þar sem þetta samrýmist ekki gildandi deiliskipulagi.

Taka ekki launahækkun kjararáðs ■■Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að taka ekki hækkun launa samkvæmt ákvörðun kjararáðs. Bæjarráð ætlast til að Alþingi taki málið fyrir og endurskoði ákvörðun ráðsins. Frekari afgreiðslu var frestað þar til niðurstaða Alþingis liggur fyrir.

Starfsfólk Ráðhúss Reykjanesbæjar efnir til góðgerðar-spinningtíma í þágu Fjölskylduhjálpar í samvinnu við Sporthúsið. Það verður haldið næsta sunnudag, sem verður fyrsti sunnudagur í aðventu, þann 27. nóvember og stendur frá klukkan 10 til 13. Opið verður fyrir þau sem ekki eru með aðgang að Sporthúsinu. Á staðnum verður söfnunarbaukur og fara nöfn þeirra sem mæta í pott og möguleiki er á að vinna sér inn kort í Sporthúsinu. Hugmyndin varð til í kaffitíma starfsfólks Ráðhússins sem var að ræða áhuga sinn á því að gera góðverk á aðventunni. Ýmsar hugmyndir spruttu

27

VÍKURFRÉTTIR

Ástkær sonur minn, bróðir, mágur og frændi,

Eysteinn Skarphéðinsson lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 16. nóvember. Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju, fimmtudaginn 1. desember, kl. 13:00. Anna Margrét Jónsdóttir, Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, Njáll Skarphéðinsson, Jón Valgeir Skarphéðinsson, Anna Andrésdóttir, Sigurður Skarphéðinsson, Linda Hrönn Birgisdóttir, Rakel Valsdóttir, Jón Oddur Guðmundsson og frændsystkini.

Aðventuhátíð

Kvenfélag Keflavíkur býður til Aðventuhátíðar eldri borgara á Suðurnesjum í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju 27. nóvember kl. 15:00. Kaffiveitingar, söngur, skemmtiatriði og jólahugvekja. Allir eldri borgarar hjartanlega velkomnir. Kvenfélag Keflavíkur þakkar eftirtöldum fyrir stuðninginn

Keflavíkurkirkja

Reykjanesbæ


28

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 24. nóvember 2016

Feðgar á ferð fyrir jólin

Feðgarnir Magnús Hlynur Hreiðarsson og Fannar Freyr sem eru nú komnir með þætti sína á tvo DVD diska í sama hulstrinu.

Feðgar á ferð eru skemmtilegir þættir sem sýndir voru á Stöð 2 sumarið 2015 og sumarið 2016, alls tuttugu þættir. Í þáttunum heimsækja þeir feðgar, Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður, sem er fæddur og uppalinn í Vogum á Vatnsleysuströnd og Fannar Freyr Magnússon jákvætt og skemmtilegt fólk á Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu. Fólkið er á öllum aldrei og hefur frá mörgu skemmtilegu að segja. Jákvæðni og lífsgleði er mottó þáttanna. Nú gefst öllum tækifæri að sjá þættina, ekki síst þeim sem eru ekki áskrifendur að Stöð 2 og misstu því af þáttunum. Í þáttunum eru 16 systkinin frá Kjóastöðum í Biskupstungum heimsótt sem og samrýmdustu systkini landsins

í Keflavík, rætt er við Má Gunnarsson, sund- og tónlistarmaður í Keflavík, búningafjölskylda í Vogunum sýnir frábæra búninga, Gunnar Kristjánsson, skeiðaspilari í Keflavík er heimsóttur þar sem hann spilar meðal annars með Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesjum, skrýtnustu hundar landsins eru skoðaðir, tekið er hús á Þórði Tómassyni, 95 ára í Skógum undir Eyjafjöllum, 9 ára undrabarn í píanóleik er heimsótt og einn þáttur er um þá staðreynd að ekkert kynlíf er á himnum svo eitthvað sé nefnt um efnistök þáttanna. Hægt er að panta DVD diskana á heimasíðunni www. fedgaraferd.is.

Auglýsing um endurskoðun á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2015-2030 Bæjarstjórn Reykjanesbæjar auglýsir hér með endurskoðað aðalskipulag Reykjanesbæjar skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 og hjá Skipulagsstofnun frá og með 24. nóvember 2016 til 5. janúar 2017. Tillagan er einnig aðgengileg á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. janúar 2017. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ. Reykjanesbæ, 24. nóvember 2016 Skipulagsfulltrúi

Eyrún Ævarsdóttir og Óliver Ævar ásamt Skúla Magnússyni, forseta Keilis, að afhenda Brunavörnum Suðurnesja bangsana góðu.

Gáfu bangsa í sjúkrabíla ●●Kiwanisklúbburinn Keilir gefur bangsa í nafni Ævars Guðmundssonar Kiwanisklúbburinn Keilir afhenti Brunavörnum Suðurnesja nýjar birgðir af böngsum í vikunni. Þeir eru ætlaðir fyrir þau börn sem þurfa á sjúkraflutningum að halda. Hefð hefur skapast fyrir því að Kiwanisklúbburinn Keilir gefi bangsa til

Brunavarna Suðurnesja. Bangsinn hefur fengið nafnið Ævar en það er gert í nafni Ævars Guðmundssonar, fyrrverandi Keilismanns, sem lést árið 2008. Fjölskylda hans styrkti verkefnið „Kiwanisklukkan“ á hringtorginu á gatnamótum Hafnargötu og Aðal-

götu og síðan þá hefur verið afhentur styrkur í nafni hans. Eyrún Helga Ævarsdóttir og Óliver Ævar sáu um að afhenda bangsana en Eyrún er dóttir Ævars heitins og Óliver Ævar er barnabarn hans.

SPENNANDI EIGN TIL LEIGU EÐA SÖLU / STAPABRAUT 1

Um er að ræða 1.289m2 hús sem byggt var árið 1999 og skiptist í tvo stóra sali með mikilli lofthæð, flísalagða forstofu, flísalagt eldhús með innréttingu, skrifstofurými, þrjú baðherbergi og háaloft sem er yfir hluta eignarinnar. Hiti er í öllum gólfum eignarinnar. // Fimm stórar innkeyrsluhurðir eru í eignina og þrjár inngöngu hurðir. Möguleiki á að skitpa eigninni upp í smærri bil. // Stórt og gott malbikað plan er við eignina. Húsið stendur á 6.588m2 lóð og er staðsett alveg við Reykjanesbraut. Nýtingarhlutfall lóðar er 0,4%.

Upplýsingar um eign veita: Stuðlaberg: s. 420 4000 Prodomo: s. 420 4030 Ásberg: s. 421 1420 Eignarsalan: s. 420 6070


fimmtudagur 24. nóvember 2016

29

VÍKURFRÉTTIR

„Það er stundum grínast með að gömlu bækurnar séu til á mörgum baðherbergjum en þessi ætti að vera til í öllum betri stofum landsins.“ TÖLVUSTÝRÐ LYFJASKÖMMTUN GERIÐ VERÐSAMANBURÐ Á SKÖMMTUNARGJÖLDUM

Siggeir afhendir hér Bókasafni Grindavíkur eintak af bókinni.

Sturlaðar staðreyndir í bók ●●Vinirnir Ásgeir og Siggeir eyddu mörgum kvöldum og helgum á Bókasafni Grindavíkur“

Fánýtur þjóðlegur fróðleikur er ný bók tveggja æskuvina úr Grindavík, þeirra Ásgeirs og Siggeirs. Bókin inniheldur skemmtilegar staðreyndir um hitt og þetta, bæði gagnlegar og einhverjar ekki svo gagnlegar ásamt miklu af teiknuðum myndskreytingum. Hugmynd að slíkri bók hafði komið upp á borðið fyrir nokkrum árum og loks ákváðu félagarnir að slá til, því margar hendur vinna jú létt verk. Hverjir eru höfundarnir? Við heitum Ásgeir Berg Matthíasson og Siggeir F. Ævarsson og erum æskuvinir úr Grindavík. Ásgeir er í doktorsnámi í Skotlandi í heimspeki og ég er menntaður sagnfræðingur og starfa sem upplýsingafulltrúi hjá Grindavíkurbæ. Um hvað er bókin og fyrir hverja? Bókin er mjög lífleg og mikið myndskreytt en það eru yfir 1.700 staðreyndir í henni. Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi í bókinni, markhópur hennar er í raun mjög breiður. Bókin er um allt milli himins og jarðar. Sumar staðreyndirnar í henni eru mjög handahófskenndar á meðan aðrar eru kannski „hefðbundari,“ en flestar eru þær vonandi skemmtilegar. Staðreyndirnar fundum við víða. Við eyddum mörgum kvöldum og helgum á Bókasafni Grindavíkur þar sem við flettum bókum, vefsíðum og blöðum og grófum upp staðreyndir úr öllum áttum. Þá voru líka nokkrir hjálpsamir aðilar sem gaukuðu að okkur skemmtilegum staðreyndum eða hjálpuðu til við að staðfesta eða hrekja aðrar staðreyndir. Myndirnar í bókinni teiknuðu þau Bjarney Hinriksdóttir og José Vásquez.

Hvernig datt ykkur í hug að gera bók með skemmtilegum staðreyndum? Fyrir ansi mörgum árum þýddi Ásgeir erlendar bækur af sama meiði sem hétu Fánýtur fróðleikur. Það var alltaf á stefnuskránni að gera íslenska bók og í fyrra hafði útgefandinn, Tómas Hermannsson, samband við hann og spurði hvort það væri ekki kominn tími til að gera alvöru úr þeim fyrirætlunum. Það óx honum þó töluvert í augum en Siggeir sannfærði hann um að margar hendur myndu vinna létt verk og að saman yrði þetta ekkert mál, svo við létum slag standa. Það reyndist að sjálfsögðu hárrétt enda var mjög gaman að vinna að bókinni og vonandi sjá lesendur eitthvað af gleðinni skína í gegn. Er þetta fyrsta bók ykkar? Siggeir skrifaði Sögu Lionsklúbbs Grindavíkur sem kom út í fyrra á 50 ára afmæli klúbbsins og Ásgeir er búinn að þýða fjórar bækur af fánýtum fróðleik. Stefnir þú eða þið á að gefa út fleiri bækur í framtíðinni? Það væri algjör draumur að geta starfað við það að skrifa bækur, verðum við ekki bara að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér? Hvenær kom bókin út? Hvernig hafa viðtökurnar verið? Hún er nánast rjúkandi heit úr prentsmiðjunni. Hún fór í dreifingu í síðustu viku og er núna fáanleg í öllum betri bóka- og matvöruverslunum. Fyrstu viðbrögð hafa verið góð og vonandi sjáum við hana toppa sölulistana á næstu dögum.

Siggeir og Ásgeir á toppi Þorbjarnar er þeir vinir skelltu sér í fjallgöngu á milli skrifta.

Var einhver sem veitti ykkur innblástur við gerð bókarinnar? Sem sagt einhver manneskja eða jafnvel einhver önnur bók? Við leituðum fanga hjá nokkrum góðum höfundum og í þeirra bókum. Ber þar helst að nefna Snæbjörn Guðmundsson, Dr. Gunna, Árna Björns-

son og Víði Sigurðsson. Bókin sjálf byggir svo á erlendri fyrirmynd en við erum að okkar mati búnir að búa til bók sem er í raun mun veglegri og eigulegri gripur en fyrirrennarar hennar. Það er stundum grínast með að gömlu bækurnar séu til á mörgum baðherbergjum en þessi ætti að vera til í öllum betri stofum landsins.

Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.

Hringbraut 99 - 577 1150

Jólamarkaður í Bryggjuhúsi Duus Safnahúsa HELGINA 26. OG 27. NÓVEMBER OPIÐ LAUGARDAG – SUNNUDAG KL. 12.00 - 17.00. HANDGERÐIR MUNIR EFTIR HEIMAFÓLK


30

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 24. nóvember 2016

ÍÞRÓTTIR

Hildur Björk Pálsdóttir hildur@vf.is

„Við áttum ekki von á sigri“

●●segir Sara Sigmunds um CrossFit Invitational liðakeppnina

„Fyrir æfingu horfum við á klippur frá æfingu gærdagsins“

Lið Evrópu sigraði í Reebok CrossFit Invitational liðakeppninni sem fram fór í Oshawa í Kanada um helgina en liðið var skipað þremur Íslendingum og einum Svía. Þetta er í fyrsta sinn sem Evrópa sigrar í keppninni. „Við ákváðum að fara í þetta mót og reyna að hafa eins gaman og við gátum. Við vorum eiginlega ekki að búast við sigri, þar sem við vorum í síðasta sæti í fyrra. Svo bara gekk allt upp. Við vorum öll svipað góð í æfingunum og það gerði það að verkum að við vorum mun samstilltari en í fyrra og náðum að tala mjög vel saman í mótinu. Þetta var mjög gaman,“ segir

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, en ásamt henni var lið Evrópu skipað þeim Katrínu Tönju Davíðsdóttur og Björgvin Karli Guðmundssyni frá Íslandi og Lukas Högberg frá Svíþjóð. Þjálfari liðsins var Samantha Briggs frá Bretlandi. Keppnin var æsispennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en í lokagreininni. Evrópska liðið endaði með 23 stig en í öðru sæti voru Bandaríkin með 16 stig.

●●Sara Rún Hinriksdóttir í viðtali um lífið í háskólakörfuboltanum Keflvíkingurinn Sara Rún Hinriksdóttir spilar körfubolta með Canisius háskólanum í Buffalo í New York fylki en þar er hún á sínu öðru ári. Sara spilar bæði sem bakvörður og framherji, en hún er vongóð um að hlutverk hennar í liðinu stækki í ár frá því í fyrra og telur liðið geta náð mjög langt í vetur. Hvernig leggst tímabilið í þig og hvaða væntingar hefurðu til þess? Tímabilið leggst rosalega vel í mig. Við stelpurnar erum þvílíkt búnar að æfa vel í allt sumar og yfir allt undirbúningstímabilið. Er liðið mikið breytt frá því í fyrra? Hvernig breytist hlutverk þitt í liðinu? Já ég myndi segja það, við misstum þrjá mjög góða leikmenn út og fengum þrjá rosalega góða nýliða inn. Mín tilfinning er sú að hlutverkið mitt muni stækka á þessu tímabili, en svo veit maður aldrei! Mér finnst rosalega mikill munur persónulega að vera að byrja annað árið heldur en það fyrsta, núna veit maður hvað maður er að

fara út í og er einhvern veginn aðeins rólegri með allt saman. Hve langt telurðu ykkur geta náð í ár? Ég tel liðið mitt geta náð mjög langt í ár. Eins og ég sagði þá erum við búnar að vera að æfa stíft í allt sumar og vonandi á það eftir að skila sér. Svo erum við líka allar staðráðnar í því að gera betur en í fyrra. Hvernig er liðsandinn? Liðsandann er rosa góður, við erum ein stór heild sem mér finnst skipta rosalega miklu máli. Ertu með persónulegt markmið fyrir þetta tímabil?

Já, að verða betri leikmaður á hverri æfingu og í hverjum leik og að gera allt sem ég get svo að liðið verði betra. Hvernig var tilfinningin í fyrsta leik tímabilsins? Tilfinningin var rosalega góð, það er spenningur í að gera betri hluti en í fyrra. Geturðu lýst venjulegum degi hjá þér úti? Ég vakna snemma og fer í skólann. Eftir skólann fer ég að lyfta, svo fer ég oftast og fæ mér eitthvað að borða og fer svo á bókasafnið, því það er alltaf svo mikið heimanám. Fyrir æfingu horfum við á klippur frá æfingu gærdagsins, en þá er þjálfarinn búinn að taka saman í myndband hvað við þurfum að laga. Mér finnst það mjög sniðugt, því það er svo gott að sjá mistökin, en ekki bara tala um þau. Svo er það æfingin sjálf. Þetta árið hafa æfingarnar verið rosalega langar, alveg upp í þrjár klukkustundir. Og það er ekki ein mínúta sem fer til spillis. Hver einasta sekúnda er skipulögð. Eftir æfingu er annar myndbandsfundur þar sem farið er yfir liðið sem við munum spila gegn næst. Við skoðum hvernig vörn og sókn þær spila og hvernig við ætlum að spila á móti þeim. Eftir það þá förum við allar á matsölustað sem er hérna á skólalóðinni og borðum kvöldmat saman. Eftir kvöldmat fer ég stundum á bókasafnið, en það fer eftir því hvort ég hafi náð að læra allt fyrr um daginn eða ekki.

Keflavík með tvö lið á Haustmótum í hópfimleikum Fimleikadeild Keflavíkur sendi lið úr þriðja flokki, skipað stelpum á aldrinum 10 til 12 ára á Haustmót í hópfimleikum í Stjörnunni og höfnuðu þær í 12. sæti af 22 liðum. Margar þeirra voru að keppa á sínu fyrsta móti á vegum Fimleikasambands Íslands og stóðu sig með prýði. Á Haustmóti er liðum raðað niður í deildir fyrir komandi mót og mun lið þriðja flokks í Keflavík keppa í B deildinni eftir áramót. Annar flokkur Keflavíkur keppti á Haustmóti á Akranesi en hann er skipaður

stelpum á aldrinum 12 til 14 ára. Stelpurnar sýndu góðar æfingar sem skiluðu þeim 5. sætinu af 14 liðum og munu þær keppa í A deildinni eftir áramót. Bæði liðin fengu háar einkunnir í stökkum, eða með þeim hæstu af öllum liðunum og sýndu öruggar og vel útfærðar æfingar. „Við í Keflavík leggjum mikla áherslu á góða tækni og öryggi. Stelpurnar sýndu það að krefjandi og heilbrigðar æfingar skila sér í góðum úrslitum og skemmtilegum degi,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Blönduð sveit sem setti Íslandsmet í 4 x 100m skriðsundi, þau Árni, Kristófer, Eydís og Sunneva.

Sögulegur árangur ÍRB ●●Kristófer og Davíð náðu lágmörkum fyrir Heimsmeistaramótið í Kanada Lið ÍRB átti frábæru gengi að fagna á Íslandsmeistaramótinu í sundi í 25m laug sem haldið var í Ásvallalaug um liðna helgi. Tveir sundmenn náðu lágmörkum fyrir Heimsmeistaramótið og fjögur Íslandsmet ásamt tveimur aldursflokkametum voru sett af liðsmönnum ÍRB. Alls vann ÍRB 21 grein af 44 mögulegum á mótinu sem er algjörlega magnað og einstakur árangur. Ekkert sundlið í íslenskri sundsögu hefur áður unnið svo marga titla á einu Íslandsmóti. Í heildina vann liðið til 39 verðlauna á mótinu. Til flestra titla vann Þröstur Bjarnason, en hann varð Íslandsmeistari í sjö greinum. Fjórum einstaklingsgreinum og þremur boðsundum. Hann sigraði í 200m, 400m, 800m og 1500m skriðsundi ásamt því að vera í sigursveit í þremur boðsundum. Af þeim boðsundum voru tvö þeirra íslandsmet. Eftirtaldir sundmenn urðu Íslandsmeistarar í eftirtöldum fjölda greina. Þröstur Bjarnason í 1500m skriðsundi, 800m skriðsundi, 400m skriðsundi, 200m skriðsund og þrjú boðsund. Sunneva Dögg Robertson í 400m skriðsundi, 200m skriðsundi, 400m fjórsundi og þremur boðsundum. Eydís Ósk Kolbeinsdóttir í 1500m skriðsundi, 800m skriðsundi og þremur boðsund. Davíð Hildiberg Aðalsteinsson í 100m baksundi og fjórum boðsundum. Baldvin Sigmarsson í 200m flugsundi, 400m fjórsundi, 200m bringusundi og einu boðsundi. Árni Már Árnason í fjórum boðsundum. Kristófer Sigurðsson í fjórum boðsundum. Karen Mist Arngeirsdóttir í 100m bringusundi og 200m bringusundi. Gunnhildur Björg Baldursdóttir í 200m flugsundi. Þeir Kristófer Sigurðsson og Davíð Hildiberg Aðalsteinsson náðu lágmörkum fyrir Heimsmeistaramótið

sem haldið verður í Windsor í Kanada í næsta mánuði. Átta sundmenn náðu lágmörkum fyrir Norðurlandamótið sem einnig er í næsta mánuði en það verður í Kolding í Danmörku. Það eru þau Íris Ósk Hilmarsdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir, Sunneva Dögg Robertson, Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Stefanía Sigurþórsdóttir, Kristófer Sigurðsson, Þröstur Bjarnason og Davíð Hildiberg Aðalsteinsson. Blandaðar sveitir ÍRB settu tvö Íslandsmet. Í 4 x 100m skriðsundi en þá sveit skipuðu þau Árni Már Árnason, Kristófer Sigurðsson, Sunneva Dögg Robertson og Eydís Ósk Kolbeinsdóttir og í 4 x 100m fjórsundi en þá sveit skipuðu þau Davíð Hildiberg Aðalsteinsson Árni Már Árnason, Sunneva Dögg Robertson og Eydís Ósk Kolbeinsdóttir. Karlasveit ÍRB setti tvö íslandsmet. Í 4 x 100m fjórsundi en þá sveit skipuðu þeir Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, Árni Már Árnason, Þröstur Bjarnason og Kristófer Sigurðsson og í 4 x 100m skriðsundi en þá sveit skipuðu þeir Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, Árni Már Árnason, Kristófer Sigurðsson og Þröstur Bjarnason. Karlasveitin í 4 x 200m skriðsundi sigraði þá grein með yfirburðum. Alveg við Íslandsmetið í greininni eða aðeins 7/10 frá metinu. Sveitina skipuðu þeir Kristófer Sigurðsson, Baldvin Sigmarsson, Davíð Hildiberg Aðalsteinsson og Þröstur Bjarnason. Tvö önnur met voru sett af sundfólki ÍRB á mótinu. Kvennasveit ÍRB setti Íslandsmet í stúlknaflokki (15-17 ára) í 4 x 200m skriðsundi þegar þær unnu til silfurverðlauna. Sveitina skipuðu þær Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Sylwia Sienkiewicz, Sunneva Dögg Robertson og Stefanía Sigurþórsdóttir. Hitt metið kom í 4 x 100m fjórsundi, en það setti B-sveit ÍRB. Þar slógu þær met í meyjaflokki (12 ára og yngri). Sveitina skipuðu þær Hafdís Eva Pálsdóttir, Sólveig María Baldursdóttir, Eva Margrét Falsdóttir og Ásta Kamilla Sigurðardóttir.


fimmtudagur 24. nóvember 2016

Njarðvíkingar taka forystuna á Meistaramótaröðinni í Glímu

Már Gunnarsson setti Íslandsmet á afmælisdaginn

●●glímufólk í ævintýrum á leið til Reyðarfjarðar Glímufólk úr Njarðvík lagði land undir fót um síðustu helgi og keyrði austur á Reyðarfjörð á fyrsta hluta Íslandsmeistaramótsins í Glímu. Enterprice bílaleigan sá um að Júdódeildin væri á öruggri og rúmgóðri mótorkerru. Keyrðir voru yfir 1300 kílómetrar á rúmlega sólahring. Ferðin var ekki laus við ævintýri því þegar glímumenn úr Reykjanesbæ voru komnir á Höfn í Hornafirði féllu mörg aurflóð í Berufirði. Í stað þess að gefast upp og snúa við þá ákvað glímufólkið að halda áfram og ef að illa færi myndi það þá sofa í bílnum sem var mjög rúmgóður og bíða veðrið af sér. Þegar komið var í Berufjörð voru ferðalang-

■■Í s l a n d s m ó t Íþróttasambands fatlaðra í sundi í 25 metra laug fór fram í Hafnarfirði um síðustu helgi. Mótið fór f r am s am h l i ð a ÍM25 hjá Sundsambandi Íslands. Su n d m a ð u r i n n Már Gunnarsson úr ÍRB/Nes gerði sér lítið fyrir og setti glæsilegt Íslandsmet í 400m skriðsundi í flokki sjónskertra/blinda (s12), á sjálfan sautján ára afmælisdaginn, en hann synti á 4:57.08.

arnir stoppaðir af björgunarsveitinni á svæðinu en þegar liðsmenn hennar heyrðu hversu langt glímumenn voru komnir að og að erfitt væri að stöðva ferð þeirra möglunarlaust, bentu þeir hinum ákveðnu Reykjanesbæingum á að mögulega væri Öxi fær. Það gekk eftir og um nóttina var áð í grunnskóla Reyðarfjarðar og keppni hófst á tilsettum tíma. Erfiðleikar ferðalagsins gleymdust þegar Njarðvíkingarnir mættu á gólfið. Kári Ragúel Víðisson sigraði og Garðar Freyr Bjarkason varð annar bæði í unglingaflokki og -80kg flokki Karla og eru því efstir eftir fyrsta mót þessa tímabils.

Sindri Kristinn Ólafsson skrifar:

Hannes tekur við Reyni Sandgerði

Að missa tökin Sindri heiti ég Ólafsson, bý í Keflavík og æfi fótbolta með Keflavík. Ég byrjaði að æfa körfubolta með Keflavík þegar ég flutti hingað sem sagt 8 ára gamall og byrjaði síðan í fótbolta um það bil tveimur árum seinna. Það var góðvinur minn, hann Guðlaugur Guðberg, sem dró mig á æfingu því ég var svo góður í marki í frímínútunum í Myllubakkaskóla. Jú ég mætti á æfingu og heillaðist um leið af þessari íþrótt og þjálfarinn vildi að ég myndi halda áfram að mæta á æfingar sem ég gerði. Þannig að ég stundaði báðar íþróttirnar af krafti og fannst mjög gaman að þessu öllu. Seint um veturinn 2009 (5. flokkur eldri) var ég harður á því að hætta að æfa fótbolta og byrja bara að æfa körfubolta vegna þess mér fannst ekki gaman lengur í fótbolta. Mamma sagði að ég réði þessu alveg en ég þyrfti að klára að æfa út mánuðinn þar sem hann karl faðir minn var búinn að borga æfingagjöldin þennan mánuðinn. Ég sagði bara þá það þó að ég hefði engan áhuga á að mæta enda tók ég upp á því að fara ekkert á æfingarnar, fór frekar að gera eitthvað allt annað. Ég man vel eftir því að mamma skammaði mig smá fyrir þetta og við ræddum lengi saman og hún stakk upp á því að tala við Unnar þjálfara um þetta og ég samþykkti það. Á einhvern ótrúlegan hátt náði Unnar að plata mig í að halda áfram í fótbolta en hef ég aldrei þakkað honum almennilega fyrir það. Á þessum tíma var hann bara að biðja einhvern ágætan leikmann halda áfram en í dag á ég honum mikið að þakka, fyrir að hafa haft trú á mér og haldið mér inni í þessari íþrótt sem ég elska og lifi fyrir í dag. Tímabilið 2015 var furðulegt tímabil. Það kom hollenskur markvörður til okkar sem heitir Richard Arend, gjörsamlega frábær náungi. Ég var 18 ára og var varamarkvörður auðvitað. Það gekk ekkert sérstaklega vel í byrjun tímabils hjá okkur og þjálfarinn okkar var látinn fara og nýir tóku við. Ég fékk sénsinn strax í fyrsta leik hjá nýjum þjálfurum, ótrúlegt en satt unnum við leikinn 3-1 sem var virkilega gaman. Ég hélt áfram að fá að spila og já það gekk nokkuð vel en samt ekkert frábærlega.

VF.IS Í NÝJUM FÖTUM

31

VÍKURFRÉTTIR

Það fór þannig að ég spilaði restina af tímabilinu og gekk mér ágætlega en liðið féll því miður með tilþrifum og 1. deildin beið okkar að ári. Ég var síðan valinn í U-19 ára landsliðið fyrir undankeppni EM og spilaði ég alla 3 leikina í keppninni og spilaði ágætlega. Sem sagt frábært ár fyrir mig í fótboltanum og bara bjartir tímar framundan og nýr þjálfari var ráðinn. Síðan rann árið 2016 upp og Keflavík fékk til sín markmann frá HK, Beiti Ólafsson, sem er einn besti náungi sem ég hef kynnst og frábær markmaður. Ég spilaði mikið í janúar og allt gekk vel en spilatíminn fór minnkandi þegar leið á árið og ekki leið á löngu áður en Íslandsmótið var byrjað. Ég var markmaður númer tvö hjá Keflavík en á þeirri stundu trúði ég svo heitt innra með mér að ég gæti greitt úr þeirri flækju og unnið þessa samkeppni. Ég reyndi hvað ég gat. Tilboð kom frá öðru liði um að koma og fá að spila alla leiki fyrir það félag og langaði mig að hoppa strax á það og voru mínir nánustu mér fullkomlega sammála að þetta væri gott skref. Ég fylltist spennu og tilhlökkun og vonaðist eftir tækifærinu. Þegar ég frétti að þessu yrði hafnað af Keflavík brotnaði ég gjörsamlega og fór í svo ranga átt í lífinu. Ég varð pirraður úti Keflavík, félagið sem ég elskaði út af lífinu og fannst það hafa brugðist mér. Ég lét svona lítinn hlut breyta mér til hins verra eg fór að venja mig á slæma hluti, svo sem svefnvenjur og fór að borða illa og sýndi ekki jafn mikinn áhuga og áður. Auðvitað kom

TÖLVUNNI

FYLGSTU MEÐ Í...

það bara í bakið á mér þar sem ég fór að standa mig illa á æfingum, spila illa með 2. flokk og fór að líða mjög illa utan fótboltans. Engin tækifæri komu og allt í blússandi mínus og margir farnir að efast um mig, sjálfstraustið farið og ekkert gekk upp. Ég var að láta fólk út í bæ hafa áhrif á mig vegna þess að þeim fannst að ég ætti að vera í markinu sem var að sjálfsögðu bölvað kjaftæði þar sem ég átti ekki neitt skilið að vera í markinu. Ég skammast mín stundum fyrir að viðurkenna það en ég grét oft eins og lítið barn á kvöldin og fannst ég vera vonlaus og að ég væri bara ekki lengur með þetta. Eysteinn þjálfari talaði við mig eftir einn leikinn og tjáði mér af hverju ég væri ekki að fá sénsinn. Ég ætla ekkert að fela það en ég gat ekki komið upp einu orði, ég var svo miður mín. Eysteinn á inni hjá mér miklar þakkir fyrir það að hafa hjálpað mér með þetta tímabil. Loks var tímabilið búið og settist ég þá niður með fjölskyldunni minni og umboðsmanni og við ræddum málin í bak og fyrir um það hvað hefði farið úrskeiðis á þessu tímabili. Jú, allir aðilar voru sammála um að ég þyrfti að laga það hvernig ég færi með mig og þyrfti nauðsynlega að hafa betri rútínu og hugsa betur um mig. Mér var gerð fyllilega grein fyrir því að ef ég ætlaði að halda áfram í þessu sporti þá þyrfti að gefa miklu meira púður í þetta. Sama hversu illa þér gengur eða vonlaus þér finnst þú vera haltu áfram, sama hversu ömurlega þér gengur á æfingu eða hversu illa þessi vika, mánuður eða ár hefur gengið drullastu á lappir og haltu áfram. Ef þú ert ekki á réttri braut þá er tímabært að fara á rétta braut og fara að hugsa vel um sig. Ekki hlusta á það sem einhver úti í bæ segir eða bara það sem þig langar til að heyra. Tilgangur minn með þessum pistli eða sögu er eingöngu til að koma því á framfæri að allt getur snúist á hvolf og þú ert skyndilega komin/n á botninn veist ekkert hvað gerðist en þú þarft að halda áfram og trúa á sjálfan þig og vita hvað þú ert góð/ur og ekki gefast upp á sjálfum þér og muna að grasið er ekki alltaf grænna hinu megin. Sindri Kristinn Ólafsson Keflavík

SNJALLSÍMANUM

SPJALDTÖLVUNNI

■■Hannes Jón Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Reyni Sandgerði, en samningur þess efnis var undirritaður á dögunum. Hannes hefur lokið UEFA A þjálfaragráðu og hefur víðtæka reynslu af þjálfun, bæði sem aðal- og aðstoðarþjálfari. Hann hefur meðal annars stýrt meistaraflokki RKV, Magna Grenivík og hefur starfað sem yfirþjálfari yngri flokka hjá Þór Akureyri. Hann var aðstoðarþjálfari liðsins síðasta sumar en tekur nú við keflinu af Hafsteini R. Helgasyni sem þjálfað hafði Reyni síðustu tvö tímabil.

Hörður spilar með Keflvíkingum ■■Hörður Axel Vilhjálmsson er kominn heim úr atvinnumennsku en hann hefur undanfarinn mánuð spilað með belgíska liðinu Limburg United. Hörður opinberaði þetta í tilkynningu á Facebook síðu sinni, og segir þar að hann og eiginkona sín hafi fundið fljótlega eftir að þau komu til Belgíu að þetta væri ekki eitthvað sem þau vildu gera. „Fyrst núna er ég að átta mig á að það eru ýmsir hlutir sem eru stærri en körfubolti,“ sagði Hörður. Hörður samdi við Keflavík til fjögurra ára í vor með klásúlu sem gerði honum kleift að fara aftur út í atvinnumennsku ef tækifæri gæfist. Hann mun því koma til með að spila restina af tímabilinu með Keflavík, sem eru frábærar fréttir fyrir liðið en Hörður er einn besti körfuknattleiksmaður Íslands og er byrjunarliðsmaður í landsliði Íslands.

A.T.H Síðustu sýningar Fimmtudagur 24.nóv kl. 20:00 Sunnudagur 27.nóv kl. 17:00


Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

Mundi Áttu þeir ekki kufl á Kjarra?

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

twitter.com/vikurfrettir

instagram.com/vikurfrettir

LOKAORÐ Örvars Kristjánssonar

Kjarabarátta kennara Mikið hefur verið rætt um grunnskólakennara á síðustu vikum og þá staðreynd að kennarar telja kjör sín óviðunandi og að kennarastarfið sé alls ekki metið að verðleikum. Ég er hjartanlega sammála kennurum. Ófaglærðir einstaklingar, leiðbeinendur, hafa verið ráðnir til að sinna kennslu því auglýsingar eftir kennaramenntuðu fólki hafa ekki borið árangur. Leiðbeinendur í raun sjá til þess að skólahald geti gengið stóráfallalaust fyrir sig en það mun að öllu óbreyttu ekki ganga upp mikið lengur. Það er líka staða sem við eigum ekki að sætta okkur við. Hin óhóflega og undarlega hækkun Kjararáðs var kornið sem hreinlega fyllti mælinn hjá kennurum, í rauninni þá sprakk allt. Eðlilega. Kennarar voru eitt sinn virt stétt (launalega séð) og í sama flokki og alþingismenn. Það er himinn og haf milli þessara aðila núna og í raun er það engin lygi að kennarar séu láglaunastétt í dag. En hvers vegna er þetta svona? Eru ekki allir í dag (a.m.k. flestir) sammála um mikilvægi kennara í samfélaginu? Eða er staðreyndin kannski sú að ákveðnir fordómar séu ennþá í samfélaginu um kennara og störf þeirra? Mýtan um löng frí og stutta vinnudaga? Ég hafði um skeið þessa fordóma sjálfur. Hvet þá sem hugsa svo að kynna sér virkilega störf kennarans. Raunin er allt önnur og þetta starf hefur svo sannarlega ekki orðið auðveldara með árunum. Þrátt fyrir að vera á sama tíma afar gefandi. Sjálfur hef ég unnið með börnum og unglingum í hátt í 20 ár sem þjálfari í körfubolta. Á margan hátt er margt

líkt með störfum kennarans, en sumt auðvitað ekki en það er virkilega gefandi og skemmtilegt að vinna með ungviðinu en jafnframt afar krefjandi og það hvílir á manni mikil ábyrgð. Vinnunni er langt frá því lokið þegar maður kemur heim. Á síðustu árum hefur umhverfið/samfélagið okkar breyst sem gerir þetta ennþá meira krefjandi, en fyrir því eru margar ástæður. Sem foreldri geri ég þá kröfu að börnin mín séu meðhöndluð af fagfólki og sérfræðingum öll þau tíu ár sem þau eru í grunnskólanum. Umhverfi þeirra sé stýrt af aðilum sem eru sérfræðingar í málefnum þeirra. Segi þetta með fullri virðingu fyrir öllum þeim frábæru leiðbeinendum sem starfa við skólana okkar en skortur á faglærðum kennurum er orðið mikið vandamál sem jafnvel núna er orðið of seint að bregðast við. Þeir sem eru eftir segja nú upp í umvörpum og er ástandið grafalvarlegt. Það er næga vinnu að fá um þessar mundir og kennarar eru líka eftirsóttir starfskraftar. Til dæmis er gríðarleg vöntun á góðu fólki til þess að halda utan um og vinna að mikilli aukningu í ferðaþjónustu á Íslandi. Viðurkenni það fúslega að ég hef miklar áhyggjur af ástandinu, er með einn dreng í grunnskóla sem unir sér vel og aðra tvo á leiðinni í náinni framtíð. Mikilvægi leik og grunnskólakennara í lífi okkar fjölskyldunnar er gríðarlega mikið, ég styð kjarabaráttu þessa fólks. Hugsa hlýtt til þeirra kennara sem kenndu mér á mínum grunnskólaárum og er þeim afar þakklátur. Foreldrar, styðjum þessa baráttu kennara.

Krambúðin opnar að Hringbraut Á næstu dögum hefst vinna við breytingar á Samkaup strax við Hringbraut í Reykjanesbæ. Verslunin mun hljóta nafnið Krambúð og verður opinn allan sólarhringinn frá og með 16. desember n.k. Er þetta þriðja Krambúðarverslunin á landinu, en hinar eru við Skólavörðustíg í Reykjavík og á Húsavík. Krambúðin er verslun sem býður upp á það allra nauðsynlegasta í matvöru og leggur mikla áherslu á að leysa þarfir viðskiptavina sem eru á hraðferð eða vilja versla þegar aðrar verslanir hafa lokað. Lagt er upp með að viðskiptavinir geti orðið sér út um þær vörur sem þarf til heimilisins hverju sinni á hagstæðu verði. Fyrir fólk sem vantar skyndilausnir þá verður boðið uppá bakað á staðnum, tilbúna rétti, samlokur, tilbúin salöt, Take-Away kaffi o..fl. o.fl. Krambúðin Hringbraut verður eins og áður segir opin allan sólarhringinn og kemur þannig til móts við þá sem eru á ferðinni utan hefðbundins opnunartíma matvöruverslana.

Bílaþjónusta og bensínstöðvar við Flugvelli Bílaþjónusta og bensínstöðvar verða áberandi við Flugvelli, nýja götu í Reykjanesbæ ofan Iðavalla. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur úthlutað fjölda lóða við götuna. Stærsta lóðaumsóknin var upp á átta samliggjandi lóðir. Höldur ehf., sóttu um lóðirnar að Flugvöllum 5,7,9,11,13,15,17,19. Þar hyggst fyrirtækið setja upp umfangsmikla bílaþjónustu með smurstöð, dekkjaverkstæði, viðgerðarþjónustu og bensínstöð. Umsókn fyrirtækisins hefur verið samþykkt. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta er krafa frá Reykjanesbæ um hátt hlutfall byggingamagns. Lóðirnar séu ekki hugs-

aðar sem bílavellir til að geyma magn bílaleigubíla til lengri tíma. Blue Eignir ehf., sóttu um lóðirnar Flugvellir 21, 23 og 25. Umsókn þeirra hefur verið samþykkt. Þremur lóðum hefur jafnframt verið úthlutað til N1 hf. Um er að ræða lóðirnar númer 1, 3 og 27. N1 hf. hefur hugmyndir um byggingu bensínstöðvar og bílaþjónustu. Þá hefur Brimborg fengið úthlutað lóðinni Flugvellir 2 og HUG-verktakar fengu lóðina Flugvellir 20. Fyrsta lóðin sem úthlutað var við Flugvelli var hins vegar til Brunavarna Suðurnesja sem mun reisa nýja slökkvistöð á horni Flugvalla og Aðalgötu.

Olís fær 4000 fermetra lóð við Aðalgötu Alex Guesthouse ehf., óskar eftir að lóð félagsins við Aðalgötu í Keflavík verði minnkuð um 4000m2 og gerðir verði nýir leigusamningar fyrir Aðalgötu 60 og 62. Óskað er eftir að Olíuverslun Íslands fái þessa 4000m2. Jafnframt er óskað eftir staðfestingu á byggingarreitum skv. meðfylgjandi tillögum að lóðablöðum.

Fulltrúar Alex mættu á fund umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar á dögunum og kynntu hugmyndir um framtíðar uppbyggingu Aðalgötu 60 Samþykkt var á fundi ráðsins að úthluta Olíverslun Íslands, Aðalgötu 62 og minnka Aðalgötu 60 sem því nemur. Einnig voru staðfestir byggingareitir að framangreindum lóðum.

VILLTU VINNA Á SPENNANDI NÝJUM STAÐ? Krambúðin leitar nú að hressu og áhugasömu starfsfólki til starfa í nýrri og spennandi verslun. Áhugasamir sendi inn umsóknir á umsoknir@samkaup.is. Frekari upplýngar veitir Falur Harðarson starfsmannastjóri. falur@samkaup.is og í síma 4215400.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
46 tbl 2016 by Víkurfréttir ehf - Issuu