Skip to main content

49 tbl 2016 - seinni hluti

Page 1

30

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

Fjör í skólahreysti undankeppni í Heiðarskóla

■■Skólahreystikeppni Heiðarskóla fór fram í íþróttasal skólans 6. desember síðastliðinn. Það eru nemendur í 8. til 10. bekk sem taka þátt í keppninni og er þetta undirbúningur fyrir skólahreystikeppni grunnskólana sem haldin verður á næsta ári. Eftir mikla keppni þar sem allt var lagt undir voru það fjórir nemendur sem höfðu sigur úr býtum. Það voru þau Ástrós Elísa Eyþórsdóttir sem sigraði í armbeygjum og hreystigreip, Ísak Einar Ágústsson sigraði í upphífingum og dýfum og að lokum þau Eyþór Jónsson og Ingibjörg Birta Jóhannsdóttir sem fóru á bestu tímunum í gegnum hraðaþrautina. Að venju komu gamlar skólahreystikempur skólans til að sinna dómgæslu. Áhorfendur sem voru nemendur úr 5. til 10. bekk skemmtu sér vel og hvöttu keppendur áfram.

Myndir og texti: Óskar Birgisson.

Lögreglumenn Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eru lausar til umsóknar stöður lögreglumanna í flugstöðvardeild með starfsstöð í Flugstöð Leifs Eiríkssonars. Ráðið verður í stöðurnar frá 15. febrúar 2017. Helstu verkefni og ábyrgð: Hlutverk lögreglu er að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi; stemma stigu við afbrotum og vinna að uppljóstran brota; greiða götu borgaranna og veita yfirvöldum aðstoð við framkvæmd starfa sinna og að halda uppi almannafriði og allsherjarreglum /Lobster-Hut // s. 772-1709

Hæfnikröfur: Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Góð þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) er æskileg og góð enskukunnátta skilyrði. Önnur tungumálakunnátta er kostur. Góðir hæfileikar til mannlegra samskipta, skipulagshæfileikar, frumkvæði og nákvæmni í vinnubrögðum eru mikilvægir eiginleikar. Lögreglustjóri mun nýta sér heimild lögreglulaga um að ráða starfsmenn sem hafa ekki lokið prófi frá lögregluskóla ríkisins að því gefnu að ekki fáist tiltækur fjöldi lögreglumanna í laus störf. Frekari upplýsingar um starfið: Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármálaráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert. Starfið er vaktavinna. Áhugasamir sem áður hafa sótt um eru vinsamlegast beðnir að ítreka umsókn sína. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið með því að fara inná www.starfatorg.is og fylla út starfsumsókn þar. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 6. janúar 2017. Nánari upplýsingar veitir: Jón Pétur Jónsson - jon@logreglan.is - 4442200. Sigurgeir Ómar Sigmundsson - sos@logreglan.is - 4442200.

Gleðileg Jól og farsælt nýtt ár kæru Suðurnesjamenn Takk fyrir frábærar móttökur á þorrablótum og á bestu ljósanótt hingað til. Hittumst hress og svöng 2017. Jólakveðja frá Lobster-Hut

Sendum þér og þínum bestu óskir um

gleðileg jól og farsæld á komandi ári


Jólagjafir heimilisins KU6175

THIS IS TV

UHD - 4K • Bogið • 3840x2160 (4K) - 8M pixlar • • Nýtt Smart viðmót • LED • PQI: 1400

40“ kr. 109.900.- / 49“ kr. 129.900,- / 55“ kr. 149.900.Samsung HW-K661 320w með þráðlausu bassaboxi. WiFi eða Bluetooth þráðlaus soundbar. Verð 99.900,-

Samsung R-1 MultiRoom

WiFi eða Bluetooth þráðlaus hátalari. Til í svörtu og hvítu.

Verð 32.900,-

K5505

THIS IS TV

Samsung HW-J6510 300w með þráðlausu bassaboxi. WiFi eða Bluetooth þráðlaus soundbar. Verð 99.900,-

Samsung HW-J7511-R 320w með þráðlausu bassaboxi. WiFi eða Bluetooth þráðlaus soundbar. Verð 149.900,-

Samsung R-3 MultiRoom

Samsung R-6 MultiRoom

Verð 47.900,-

Verð 64.900,-

WiFi eða Bluetooth þráðlaus hátalari. Til í svörtu og hvítu

KU6405/6475

THIS IS TV

WiFi eða Bluetooth þráðlaus hátalari. Til í svörtu og hvítu

KU6655/6505

THIS IS TV

LED • 1920X1080 • 400 PQI • Nýtt Smart viðmót

UHD • 4K • 8 milljón pixlar • 1500 PQI • Nýtt Smart viðmót • Quad-Core örgjörfi

UHD • Curved • 4K • 8 milljón pixlar • 1600 PQI • Nýtt Smart viðmót • Quad-Core örgjörfi

32“ kr. 64.900.- / 40“ kr. 89.900./ 49“ kr. 119.900,- / 55“ kr. 149.900.-

43“ kr. 119.900.- / 49“ kr. 149.900./ 55“ kr. 179.900.- / 65“ kr. 309.900.-

43“ kr. 129.900.- / 49“ kr. 159.900./ 55“ kr. 189.900.- / 65“ kr. 309.900.-

nýr vefur Netverslun

FYRIR HEIMILIN Í LANDINU

Opnunartímar: Virka daga kl. 10-18. Laugardag kl. 11-16 Sunnudag kl. 13-17

HAFNARgötU 23 REYkjANEsbæ · sÍMI 421-1535

Greiðslukjör Vaxtalaust í allt að 12 mánuði


32

VÍKURFRÉTTIR

HEIMA HJÁ SUÐURNESJAFÓLKI:

fimmtudagur 15. desember 2016

Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson

NÝTT GAMALT

GLÆSIHÚS Á ÍSHÚSSTÍG Þau Bjarni Stefánsson og Særún Guðjónsdóttir búa í glæsilegu húsi við Íshússtíg í gamla bænum í Keflavík. Húsið er gamalt nýtt en það var byggt á árunum 2003 til 2006. Á meðan húsið var í byggingu þá bjuggu skötuhjúin í bílskúr á lóðinni. Nú hafa synirnir Patrekur og Sindri bæst í hópinn og unir fjölskyldan sér vel í einkar notalegu húsi þar sem hvert smáatriði er úthugsað. Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is

„Við höfðum áhuga á gömlu og vildum jafnvel gera upp. Ég kíkti á hús hjá einni sem var að gera upp gamalt bárujárnshús, en eftir þá heimsókn sagði ég við Bjarna að það yrði að vera gamalt/nýtt, þetta er svo rosaleg vinna,“ segir Særún og hlær. Þannig geti verið erfitt að móta gömul hús eftir sínu höfði og gera rýmin eins og hentar. Skipulagið getur verið þannig í svona gömlum, litlum húsum að erfitt er að aðlaga þau að nútíma kröfum að hennar mati. „Við vorum búin að frétta af þessari lóð sem hann Gummi Hjalta átti. Það var annar aðili sem sýndi þessu áhuga og ætlaði að setja bjálkahús á lóðina en það fékkst ekki samþykkt vegna þess að það féll ekki inn í umhverfið. Þannig að við ákváðum að kýla á þetta,“ segir Bjarni. Þau minnast þess bæði að svona gömul hús og gamli bærinn hafi ekki verið mjög vinsæl á þessum tíma, en þau keyptu lóðina árið 1998. Þó var þá að hefjast mikil uppbygging í gamla

bænum og nýbúið að taka göturnar þar í gegn.

Tekið alla leið

Þau ákváðu að byggja frekar stórt hús en fyrst um sinn bjuggu þau í rúmgóðum bílskúr sem þau reistu á lóðinni. „Við ákváðum að taka þetta bara alla leið. Við byggðum skúrinn fyrst á meðan við vorum að manna okkur upp í verkefnið sem lá fyrir,“ segir Bjarni og skellir upp úr. „Það tók ekkert á að búa í skúrnum. Mér fannst það mjög fínt,“ segir Særún. „Ég verð þó að segja að hún var orðin svolítið þreytt þarna síðasta árið og var farin að ýta á að klára húsið,“ bætir Bjarnir við og hlær. „Ég fór til mömmu í rúm fjögur ár að þvo þvottinn en það var ekki fyrr en síðasta árið í skúrnum að við vorum með þvottahúsið klárt,“ segir Særún. Þau voru tvö í kotinu á meðan þau bjuggu í skúrnum en nú eru þau fjögur sem búa í húsinu. Þau kunna ákaflega vel við sig í gamla bænum og vilja helst hvergi annars staðar vera. „Umhverfið er svo flott og það er stutt niður í bæ. Það er góður andi í hverfinu og hér eru góðir nágrannar. Næðið er mjög mikið og það er varla að maður finni fyrir því þegar haldin er Ljósanótt,“ segir Sæ-

rún en hátíðarsvæðið er rétt hundrað metrum frá húsinu. „Amma mín átti alltaf heima á Vallagötunni þar sem núna er Bernhard gistihús og fjölskylda mín er alin þar upp,“ segir Særún sem þannig tengist gamla bænum sterkum böndum. Bæði eru þau uppalin í Keflavík og muna vel eftir lífinu í gamla bænum sem krakkar. Frá því að byrjað var að byggja húsið þá tók það tvö og hálft ár að rísa. Þau ákváðu að flytja ekki inn fyrr en allt væri gjörsamlega klárt. Öll gólfefni og allir listar þurftu að vera á sínum stað, ekkert hálkák með það. Búið var að græja lóðina áður en þau fluttu inn en þeir hjá Nesprýði sáu um að bjarga því. Lóðin var þétt setin síðasta sumar þegar Jón Jónsson tróð þar upp á heimatónleikum á Ljósanótt. Þeir tónleikar þóttu einkar vel heppnaðir og stefna þau Bjarni og Særún á að vera með á næsta ári líka. „Mér finnst æðislegt að vera hérna og stutt í allt. Það yrði erfitt að fara. Hvaða hús myndi mig langa í annars? Reyndar hefur mig alltaf langað í gamla bókasafnshúsið á Mánagötu,“ viðurkennir hún en það hús er mjög virðulegt og flott. Á meðan á framkvæmdum stóð þá breyttist margt eins og gengur og gerist og margar hugmyndir skjóta upp kollinum. Á tímabili söfnuðu þau meðal annars pottofnum sem áttu að prýða húsið. Horfið var frá þeirri hugmynd og ákveðið að setja hita í gólfin. Til stóð að hafa veggina klædda með fulningum en að lokum var ákveðið að klæða með gifsi. Það eru ekki hvaða húsgögn sem er sem sæma sér í svona húsi, vanda þarf valið enda pæla þau mikið í því hvort hlutirnir passi inn í heildarmyndina. „Mér finnst gaman að blanda saman gömlu og nýju - bara það sem okkur finnst flott,“ segir Særún en þau eru ekki að sækjast í neinn sérstakan stíl. Þau fengu einu sinni bakþanka þegar sökkullinn af húsinu var kominn og ferlið farið af stað, enda ærið verkefni að ráðast í að byggja svona hús. Særún segist vera mjög fegin í dag að þau hafi haldið þessu til streitu enda vilji þau hvergi annars staðar vera og gott að vera í húsi þar sem allt er úthugsað af þeim sjálfum. Eftir alla þessa vinnu var rosalega góð tilfinning að sofa fyrstu nóttina í nýja húsinu. Það var mikill léttir og hálfgerð sigurtilfinning að sögn þeirra Bjarna og Særúnar.

Stærð húss: 160 m2 og 50 m2 bílskúr.


fimmtudagur 15. desember 2016

33

VÍKURFRÉTTIR

Þessi fallegi sófi fannst í verslun sem var að loka í Hafnarfirði á sínum tíma. Hann var keyptur áður en húsið reis enda smellpassar hann.

Gunnar Már Sveinsson teiknaði húsið en hann gaf einmitt húsráðendum forláta kamínu frá árinu 1 8 8 6 s e m pr ýð i r stofuna.


34

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

Eldhúsið er einn vinsælasti viðkomustaður hússins en þar safnast fólk jafnan saman í veislum og samkomum.

Þetta stafaparket nýtur sín til fulls í svona húsi. Bjarni segir að mikil vinna hafi farið í að leggja það og ófáir bjórkassarnir sem lágu í valnum hjá vinum og vandamönnum sem hjálpuðu til. Róbert Fisher nágranni þeirra hjálpaði mikið til og hann lét hafa eftir sér í gríni að hann ætlaði aldrei aftur að leggja svona parket. Enda er þetta mikið föndur.

Þessi skemmtilegu ljós eru af Hótel Borg en Örn Garðarsson mágur Særúnar rak þar veitingastað á sínum tíma.

Frístandandi og fallegt: Þetta stórglæsilega baðkar er í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni. Það er keypt í Bandaríkjunum og er einkar verklegt eins og sjá má. Flísalögnin á baðinu er vel heppnuð en þar var að verki Elli í Flugger.


fimmtudagur 15. desember 2016

35

VÍKURFRÉTTIR

Jólaspjall:

Schwarzenegger kemur með jólin Jón Aðalgeir Ólafsson er einka- og styrktarþjálfari frá Reykjanesbæ en er búsettur í Sandgerði. Jón var snemma kominn í jólaskap í ár þar sem þessi jól verða fyrstu jól dóttur hans, en hann gæti alveg hugsað sér að eyða jólunum á sundlaugabakkanum í Flórída einn daginn. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Jingle All the Way, fátt sem kemur mér í jafn mikið jólaskap og Schwarzenegger að eltast við Turbo Man dúkkuna! Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Við höfum bara verið að senda kveðju á Facebook en stefnan er að senda út jólakort í ár. Ertu vanafastur um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf yfir hátíðarnar? Svona upp að vissu marki. Ég fer yfirleitt í sömu jólaboðin á sömu tímum og svo er það náttúrulega bæjarröltið á Þorláksmessukvöld. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ein jólin langaði mig svakalega í rafmagnsgítar sem ég fékk svo en upp-

Falleg grein á leiðið

990 kr Jón ásamt unnustu sinni, Marín Hrund á útskriftardegi hennar frá Háskóla Íslands.

götvaði stuttu seinna að ég hafði bara enga tónlistarhæfileika.

mér fyrr í gírinn að fá að upplifa alla jólastemminguna með henni.

Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Eitt sem kemur í huga eru súkkulaðidagatölin. Mamma sagði okkur bræðrunum að það ætti bara opna einn glugga í einu en hún sagði hins vegar ekkert um að það mætti ekki taka bakhliðina af og borða allt súkkulaðið.

Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég hef ekki gert það ennþá en ég gæti alveg hugsað mér að eyða jólunum á sundlaugarbakkanum í Flórída.

Hvað er í matinn á aðfangadag? Við fjölskyldan verðum hjá tengdó og þar er hefð fyrir því að borða kalkún á aðfangadag. Hann er alveg uppáhalds! Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Jólaandinn hefur yfirleitt komið frekar seint hjá mér en í ár eru fyrstu jól dóttur minnar og það hefur komið

Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Ég var alltaf voðalega hrifinn af toppnum á jólatrénu þegar ég var yngri. Hann varð að standast ákveðnar kröfur. Hvernig verð þú jóladegi? Ætli ég reyni ekki að troða inn góðri lyftingaæfingu en annars verður deginum eytt heima í faðmi fjölskyldunnar. Svo höldum við í jólaboð um kvöldið.

„Ætli ég reyni ekki að troða inn góðri lyftingaæfingu en annars verður deginum eytt heima í faðmi fjölskyldunnar“

Ekta leðurhanskar fyrir dömur

3.900 kr Verzlun Fjölskylduhjálpar Íslands

Baldursgötu 14, Reykjanesbæ Iðufelli 14, Reykjavík Opið alla virka daga milli 13-18

16 20 16 20 16 20 16 20

ta rétta urfrét Víkurf urVík eikur ðaleik fmiðal Skafmi rétta urfesju Ska m Víkurf ur urn eik ðal Suð áSuð ta fmi a rét m Ska slan esju ver Vík urn og ur eik á slana verðal Ska esjum ogfmi og verslana á Suðurnesjum og verslana á Suðurn

NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA

Jólalukku miðum í Nettó því það verður dregið 21. og 24. des.

GEFÐU GÓÐA GJÖF UM JÓLIN

Oakley brettaog skíðagleraugu, margar gerðir, frá kr. 7.800

Oakley brettaog skíðahjálmar, margir litir, frá kr. 25.900


36

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

DAGSTJARNA ●●ljóðasamkeppni Unu í Sjólyst 2016

Ljóðasamkeppni Hollvina Unu í Sjólyst, Dagstjarna 2016, var haldin nú á haustmánuðum. Verðlaun og viðurkenningar voru svo veittar á Unukvöldi í Útskálakirkju á dögunum. Sigurvegarar:

KIRKJUHLJÓMAR

eftir Særúnu Lilju Eysteinsdóttur 9 ára Hún hringdi mjög drungalegum hljómi tikkrrrrak ooootikk takk reyndar er ekki grafið dáið fólk heldur draugar o g kirkjan er löngu farin úr bænum því að enginn þorði að koma þangað

LITLI VITINN

Litla húsið mitt heitir holan mín. Nú ert þú orðið að gistihúsi og orðið að fínasta húsinu í Garðinum mínum.

GÖMUL HÚS

eftir Hildur Ósk Óskarsdóttir. Húsið er tvö hundruð ára gamalt. Húsið veitir skjól og þakið var að hrynja og þar bjó lítil mús.

eftir Kristján Birkir Bjarkason 11 ára.

Um ljóðin:

Ég stend, horfi á fjöruna fínu, öldur í sjónum. Sólin skín í Garðinum á litla vitann.

Í raun eru þetta allt saman skemmtileg og frumleg ljóð, um gamalt hús, kirkju og Garðinn okkar. Vandi er að velja úr sigurljóð – því að í raun eru allir sem taka þátt í ljóðakeppni sigurvegarar. En við verðum að tína til nokkra og veita viðurkenningar til þess að formsatriðum sé fullnægt. Það bárust að þessu sinni nokkru færri ljóð en í fyrra og öll úr Gerðaskóla. Það er þó enn jafnmikill kraftur í skáldunum og vonandi verða bara fleiri með á næsta ári. Fyrstu verðlaun fær Sæunn Lilja Eysteinsdóttir 9 ára, fyrir ljóð sitt Kirkjuhljómur. Þetta skemmtilega ljóð er hálfgerð hrollvekja og fjallar um drauga og afturgöngur. Og sniðugt

HÚSIÐ HANS AFA

eftir Brynjar Ægir Freysson. Húsið hans afa er gamalt og þakið er að hrynja og það er góð lykt inni hjá honum og hann er alltaf að laga það. Tvenn hvatningarverðlaun eru veitt eftirtöldum:

LITLA HÚSIÐ

eftir Patrycja Elisa Porzezinzka.

bragð að lýsa því yfir að kirkjan sé farin úr bænum! Það sem gerir ljóðið enn fremur frumlegt eru hljóðlíkingarnar, þar sem reynt er að líkja eftir hljómum kirkjuklukknanna. Önnur verðlaun hlýtur Kristján Birkir Bjarkason, 11 ára, fyrir ljóð sitt Litli vitinn. Þetta stutta ljóð minnir um sumt á japanska hækú, þar sem skáldið fer penslum um náttúruna og umhverfið, í örstuttu myndmáli sem er þó um leið fjölyrt. Þarna kemur fyrir fjaran, hafið og Garðurinn okkar með báða vitana, þótt aðeins annar sé nefndur á nafn. Þriðju verðlaun hlýtur svo Brynjar Ægir Freysson, fyrir ljóð sitt Húsið hans afa. Þetta stutta ljóð er ljóðrænt og mjög persónulegt. Það fjallar um afa sem er gamall eins og húsið og angar af því, enda er hann alltaf að laga og bæta húsið sitt. Það er það sem afar gera, betrumbæta og ilma eins og hús. Ljóðin tvö sem fá sérstaka hvatningu er skemmtileg og hnittin. Húsinu er líkt við holu, kannski músarholu? Í ljóðinu er skírskotun til mikillar fjölgunar ferðamanna á Íslandi sem kallar á ný úrræði við að hýsa þá alla. Bæði ljóðin lýsa hlýju gömlu húsanna, notalegt að vera í þeim, þótt þau séu sum hver að hrynja, enda bjó þar mús! Hvatningar viðurkenningar fá Hildur Ósk Óskarsdóttir og Patrycja Elisa Porzezinzka.

OKKUR VANTAR STARFSFÓLK Í KEFLAVÍK Störfin fela í sér almenna afgreiðslu, áfyllingar vöru, vörumóttöku, þrif, þjónustu við viðskiptavini og annað tilfallandi á þjónustustöð Olís, Básnum í Keflavík. Áhersla er lögð á ríka þjónustulund, stundvísi, snyrtimennsku og hæfni í mannlegum samskiptum.

FRÁBÆRT FÓLK ÓSKAST Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, stuðning til náms og heilsueflingar, heiðarleika í samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð.

Unnið er á tvískiptum vöktum. Skilyrði er að umsækjendur hafi hreint sakavottorð og séu reyklausir. Umsóknir á olis.is og hjá verslunarstjóra. Umsóknarfrestur er til 19. desember.


fimmtudagur 15. desember 2016

37

VÍKURFRÉTTIR

Jólaspjall:

Rifist um uppvask á mávastellinu

SKÖTUHLAÐBORÐ VÍÐIS

Sigrún Björnsdóttir er 22 ára Keflavíkurmær og vinnur í Arion banka á Keflavíkurflugvelli. Jólin eru komin hjá henni klukkan 18 á aðfangadag þegar klukkurnar hringja. Georg Jensen jólaskrautið er í uppáhaldi og í aðalrétt á aðfangadag er hamborgarahryggur. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Miracle on 34th street frá árinu 1947. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Ég hef aldrei sent jólakort sjálf þannig að ég myndi ekki segja að Facebook hafi tekið yfir. Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Já, ég hef alltaf keypt mér jólanáttföt sem ég sef í á Þorláksmessunótt. Svo rífumst við systur um að vaska upp Mávastellið eftir matinn. En svo eru spilakvöld með fjölskyldu og vinum, jólaboðin, jólamaturinn og Nóa Siríus konfektið er allt mjög mikilvægt. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ég er ein af fjórum systrum og eitt árið fengum við allar mjög fallegar gærur. Þetta var áður en gærur urðu vinsælt

Föstudaginn 16. desember. Samkomuhúsinu í Garðinum. Á boðstólnum verður meðal annars saltfiskur, plokkfiskur, siginn fiskur að ógleymdri skötunni ásamt tilheyrandi meðlæti. Verðinu er stillt í hóf og kostar aðeins 3000 kr. á manninn.

punt þannig okkur brá öllum mjög en gefandinn vissi greinilega í hvað stefndi í tískubylgjunni, við hlógum okkur máttlausar yfir þessu fyrst en í dag er þetta í stofunum hjá okkur öllum og við erum rosa ánægðar með þessa gjöf. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Það er efst í huga hvað það var gaman þegar við systurnar vorum allar saman að spila og kúra yfir jólaskrípóinu í jólalandinu sem mamma býr alltaf til heima. Hvað er í matinn á aðfangadag? Í aðalrétt verður hamborgarhryggur með öllu tilheyrandi. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Ekki fyrr en bjöllurnar hringja kl. 18 á aðfangadagskvöld.

Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Já, hef verið erlendis og gæti alveg hugsað mér að gera það aftur.

Opið er í hlaðborðið frá kl. 11:30 - 13:30 og frá kl. 18:00 – 20:00. Borðapantanir fyrir stærri hópa hjá Gullý á netfangið gullysig@simnet.is

Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Viðbrögðin voru ekki mikil, ég þóttist trúa lengi vel eftir að leyndarmálinu var uppljóstrað fannst það réttlátt því mamma plataði mig svo lengi. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Ég held að George Jensen skrautin sem fara á jólatré séu í uppáhaldi, finnst þau svo hátíðleg og eru ein fyrsta minning mín frá jólum en Ásta frænka, amma og afi hafa verið dugleg að gefa okkur barnabörnunum skraut og óróa.

16 20 16 20 16 20 16 20

Hvernig verð þú jóladegi? Ég fer í jólaboð til ömmu og afa í Reykjavík og hitti þar alla föðurfjölskylduna.

„Ég hef alltaf keypt mér jólanáttföt sem ég sef í á Þorláksmessunótt“

étta urfrétta Víkurfr kurVík aleikur fmiðalei Skafmið étta urfr Ska m Víkurfr esju kur urn alei Suð áSuð fmið étta m lana Ska esju vers Vík urn og kur áSuð alei lana m fmið vers Ska esjum og urn á lana og vers esju og verslana á Suðurn

NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA

Jólalukku miðum í Nettó því það verður dregið 21. og 24. des.

V I LT Þ Ú V E R Ð A H L U T I AF GÓÐU FERÐALAGI? Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið. Nú vantar okkur fleiri til að vera hluti af góðu ferðalagi með okkur. FLUGVERND Helstu verkefni eru vopna- og öryggisleit, eftirlit í flugstöð og á flughlöðum á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir starfsfólki í hluta- og heilsdagsstörf en um er að ræða vaktavinnu. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í apríl og maí. Við bjóðum upp á fríar rútuferðir til og frá höfuðborgarsvæðinu fyrir starfsmenn sem þurfa á því að halda. Hæfniskröfur: • 18 ára aldurstakmark • Gott vald á íslenskri og enskri tungu, bæði rituðu og mæltu máli • Rétt litaskynjun • Lágmark tveggja ára framhaldskólanám eða sambærilegt • Hæfni í mannlegum samskiptum og framúrskarandi þjónustulund Allir umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að sækja undirbúningsnámskeið í tíu virka daga áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðs. Einnig þurfa umsækjendur að standast bakgrunnsskoðun ríkislögreglustjóra vegna aðgangs að haftasvæði flugverndar. Isavia hlaut gullmerki PwC fyrir launajafnrétti í jafnlaunaúttekt PwC 2015 og 2016. Við erum stolt af þeirri niðurstöðu og er hún í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað.

S TA R F S S T Ö Ð : K E F L AV Í K U R F L U G V Ö L L U R

UMSÓKNARFRESTUR: 22. JANÚAR , 2017

Arnar starfar við flugvernd á Keflavíkurflugvelli. Hann er hluti af góðu ferðalagi.

UMSÓKNIR: I S AV I A . I S/AT V I N N A


38

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

Í marglitri sviðsmynd ●●Ævintýralegt lífshlaup Birkis Baldvinssonar úr saggafullum kjallara í hæstu byggingu heims.

Páll Ketilsson pket@vf.is

B

irkir Baldvinsson ólst upp við kröpp kjör á Siglufirði og síðar í Keflavík, en stundar nú milljarða viðskipti og heldur heimili í þremur heimsálfum. Sem ungur maður tók hann þátt í Loftleiðaævintýrinu og í kjölfarið hófst ótrúlegur og farsæll viðskiptaferill þar sem gekk á ýmsu. Á dögunum kom út bók um lífshlaup Birkis og ber hún titilinn Allt mitt líf er tilviljun. Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifaði stórbrotna sögu Birkis. Hér má lesa brot úr bókinni. Við fengum inni í annarri verbúð en síðast, ekki þessum rauða og rammlúsuga bragga hans Bjössa Snæ niðri við höfn í Keflavíkinni, heldur Stóru Milljón sem kölluð var svo af töluverðri virðingu og gott ef ekki lotningu, enda allstór fabrikka með útsýni yfir höfnina og hafið og jafnvel alveg inn að Stapa, svo reisulegt sem þetta forláta frystihús var í plássinu – og þvílíkt skuespil sem framundan var, eins og mamma var vön að kalla sínar óvæntu aðstæður sem ekki var nokkur kostur að sjá fyrir; yfir allstórum fiskverkunarsalnum var portloftið þar sem saman voru komnir tíu karlar á kvöldin í aðþrengdum hengirúmum upp við þil og annað eins var af kojum fyrir konur hinum megin við eldhúsið sem mamma átti að stjórna af alþekktri ákveðni norðan af Sigló sem spurst hafði suður um heiðar og keypt var vegna orðsporsins eins. Og það sem sú stutta stóð uppi í öllu þessu samkvæmi, röggsöm ráðskonan sem heimtaði endana á öllum brauðum svo úr því fengi hún tvíbökur – og það sem út af gekk í kringlukaffinu, með sykurskán á skál, kramdi hún ofan í deigið af fjórskiptri krónutertu, þeirri sulturíkustu lagköku sem fyrirfannst í mannheimum, með vel sykruðum glassúr yfir öllu saman svo út af lak á sætabrauðsdiskinum. Ég var dreginn inn í þessa marglitu sviðsmynd eins og goggaður þorskur úr gapandi kari – og þvílík sjón að sjá; þessa líka ofvirku hormóna á harðasta aldri innan um allar þessar brjóstgóðu og gjafvaxta konur sem mamma varð að slá skjaldborg um að degi jafnt sem nóttu, en tækifærin voru mín, fann ég fljótlega, nokkuð lunkinn strákurinn og næmur vel á möguleikana í spilinu, enda þrautreyndur úr harkinu á milli bátanna heima í firði; þarna var nefnilega svo komið að ég hafði eignast tæpa tylft af pöbbum sem vildu vitaskuld allt fyrir mig gera, saklausan drenginn; ekki einasta að kenna mér alls kyns fingrabrellur og blístur, galdra alla og töfrabrögð, heldur líka flottustu trixin í almennilega æfðu harki, nefnilega að kasta einseyringnum með undirhandarsveiflu svo hann stoppaði svo gott sem geirnegldur á punktinum – og það sem ég þurfti að taka utan af mörgum og fallega skreyttum pökkum um jólin sem fóru í hönd, svo ekki sé minnst á ávextina sem þeir höfðu viðað að sér í krafti sambanda við sigldustu menn, margir hverjir svo framandi að fáir vissu hvernig ætti að borða þá, ekki síst ég sem át mína fyrstu banana með hýðinu og öllu saman. En gott og vel, ég var margfeðraður munaðarseggur, umvafinn ástúð alvöru karlmanna sem áttu allir sama einkasoninn.

Mér sóttist námið heldur skár þennan vetur, enda kominn með skárri gleraugu en áður – og heldur var ekki ónýtt að vita af mömmu kominni til heldur meiri metorða en hún hafði áður þekkt á sinni köflóttu ævi; sú stutta stjórnaði ekki aðeins eldhúsinu í efra í Stóru Milljón heldur línunni líka í neðra þar sem fiskurinn fór um slægður, skorinn, snyrtur og pakkaður í kompaníi við allt það mikla gallerí af verkafólki sem var vanara að keppa við tímann en sjálft sig, margt hvert alveg sérlega sérstakt og skrýtið í samblandi við enn kræklóttari hríslur á borð við Lalla gogg í framhúsinu sem var kallaður svo af því hann húkkaði fyrstur manna uggafiskinn upp á borð og þaðan barst hann í röðum inn fyrir vegginn sem skildi að útportið og aðgerðarsalinn, en þar var nokkur munur á; í þeim ytri var lið á borð við Lalla gogg og aðra einmana sérvitringa, í þeim innri jafnvel afkomendur fyrirfólks úr borginni, já, sjálfri höfuðborginni sem þótti talsvert nafn á þessum slóðum – og ekki á hvers manns færi að segjast vera þaðan. Ég held að Lalli goggur hafi verið fyrsti maðurinn sem ég fann almennilega til með. Hann var lítilsvirtur og hæddur og óheppinn með útlitið – og raunar þótti nefið á honum svo stórt að hann var sagður anda fyrir allt byggðarlagið. Það var því ekki að undra að hann væri feiminn bæði og beygður og lítill allur inni í sér; hafði aldrei verið við kvenmann kenndur, að því er sögur hermdu, þótt áhuginn væri greinilega fyrir hendi og má það kannski að einhverju leyti rekja til þess að hann var afskaplega lítið fyrir að þrífa sig – og því fór það svo að svokallaðir vinir hans í verkuninni boruðu tommubreitt gat á vegginn milli vinnsluplássanna svo Lalli gæti horft á allar stelpurnar í betri enda fiskvinnslunnar. Og það sem hann lyftist allur upp við þetta gægjugat og gott ef brjóstkassinn tók ekki vaxtarkipp þegar honum var sagt í stríðni einni saman að Sigga á hinum gafli vinnslunnar væri að gefa honum gætur, en þá stungu þessir vinir hans auga úr þokkalega vaxinni ýsu og tylltu í gatið – og er haft fyrir satt að Lalli hafi yngst um að minnsta kosti tíu ár við tíðindin og annað eins þegar hann sá starandi augað í veggnum,

Flugvirkjaneminn Birkir að sinna áhugamáli sínu í Kaliforníu.

dag eftir dag og raunar vikum saman, rétt eins og þessi athygli ætlaði engan endi að taka. Vistin í Stóru Milljón er misjöfn eins og allt fólkið sem hún hýsir gaflanna á milli. Og enda þótt virku dagarnir séu tiltölulega fyrirséðir, hvílir hins vegar þrúgandi óvissa yfir helgunum. Það fer allt eftir því hversu fullir karlarnir eru og hversu lengi þeir endast í húsinu. En jafnvel þótt þeir séu farnir, er fullvíst að þeir koma aftur – og þá er eins gott að mamma sé vakandi, alvön að fást við fulla menn, jafnvel vopnuð gogginum hans Lalla og til alls líkleg, jafnvel að krækja úr mönnum

augað ef þeir fara eitthvað að rífa meiri kjaft en vanalega. Það sem sú stutta gat staðið sperrt og hörð í hælinn frammi fyrir þessum her manna sem heimtaði kompaní við konurnar af þessari líka slefandi heimtufrekju sem alla jafna einkennir illa drukkna karla. En þeir þorðu aldrei í hana þar sem hún stóð á sloppnum með svuntuna reyrða undir brjóst og lét þá heyra það af sinni siglfirsku harðmælgi svo söng í salnum. Annars sofnaði hún aldrei í koju sinni uppi á portloftinu öðruvísi en að hafa flökunarhnífinn undir koddanum. Það síðasta sem hún gerði hvert einasta kvöld fyrir svefninn var að athuga

Birkir fyrir miðju, 17 ára gamall markmaður hjá KFK.

hvort kutinn væri ekki þarna á sínum stað. Og svo sofnaði hún með hann sátt og sæmilega eirin. Undir næsta haust fréttir mamma af lausu kjallaraherbergi í húsi efnafólks á Vatnsnesi, um tvö hundruð metra frá stóru fabrikkunni okkar, svo það yrði nú ekki langt fyrir mína konu að labba í vinnuna. Þarna fengum við loksins okkar prívat-herbergi í húsi Bjarnfríðar ekkju sem misst hafði Jóhann karlinn sinn í bílslysi nokkrum árum áður, en hann hafði verið verslunarmaður í plássinu og efnast vel. Þess sá stað í stofum Bjarnfríðar, en aldrei fyrr hafði ég séð jafn fallega bólstraða stóla og vel útskornar mublur og þegar ég stóð í gættinni hjá frú Bjarnfríði og mamma gekk frá leiguskilmálunum upp á punkt og prik. Auðvitað var ekki sami bragur á vistarverunum niðri í kjallaranum, en þar fengum við að koma föggum okkar fyrir í einni lítilli og kuldalegri kompu sem bar þess augljós merki að rakinn væri þar verulegur, en þar var annars að finna tvo heldur linkulega dívana, hvorn við sinn vegginn og var rétt fet á milli þeirra. Yfir höfðabríkinni var lítil gluggabora, rétt til að hleypa dálitlu súrefni inn og með því að reka álkuna þar upp undir gat maður séð út að vitanum sem gætti sjófarenda í grennd. Það sem vó upp á móti þessum þrengslum, raka og kulda var vel fíraður miðstöðvarklefi hinum megin lítils gangs sem við höfðum aðgang að og hann kom sér auðvitað vel þegar veggirnir frusu í litla kamesinu okkar á hörðum og löngum vetrarkvöldum. Þar gat mamma líka komið fyrir lítilli eldamaskínu sem hún hafði orðið sér úti um með aðstoð karlanna niðri í Milljón sem vildu auðvitað allt fyrir hana gera, fullir samviskubits eftir fylliríin á síðustu misserum.


fimmtudagur 15. desember 2016

39

VÍKURFRÉTTIR

„sjá þessa líka ofvirku hormóna á harðasta aldri innan um allar þessar brjóstgóðu og gjafvaxta konur“

Birkir og Finna, eiginkona hans, að fara í flug 1962.

Birkir 22 ára flugvélstjóri hjá Loftleiðum.

Í öðru herbergi við kjallaraganginn bjó vinnumaðurinn í húsinu, Gústi að nafni, og það var ekki laust við að honum svipaði talsvert til Lalla goggs, enda var hann álíka uppburðarlítill og feiminn mjög við annað fólk, langur reyndar á skrokkinn en dularfullur í hverjum sentimetra. Okkur var sagt að hann eyddi helst ekki krónu um sína daga heldur safnaði saman öllum þeim peningum sem hann fengi að launum fyrir margvísleg viðvik í bænum og rúllaði seðlunum svo saman og brygði teygju um hólkinn. Loks raðaði hann þeim ofan í tómar tóbaksdósir og kæmi fyrir undir rekkjunni sinni í stæðum og stöflum. Þar sat hann vanalega á kvöldin, svo sem sjá mátti inn um smávegis rifu á gættinni hans; fáskiptinn maður og talaði aldrei við mig, en bauð mömmu stundum góðan daginn án þess að þora að horfa í augun á henni. Í kompaníi við Bjarnfríði og Gústa, sem hvort virtist efnað á sinn ólíka máta, leið okkur mömmu nokkuð vel. Og þótt aðstæðurnar í kjallaranum væru fjarri því að vera ríkmannlegar – og svo þröngar raunar að það hvarflaði aldrei að mömmu að bjóða

þangað nokkurri einustu manneskju, þá fundum við til öryggis þarna niðri þar sem kyrrðin ríkti að frátalinni stöku hrotu úr herberginu hans Gústa sem við fundum strax að var meinlaus með öllu og maður friðsemdar. Mamma gat því hætt að sofa með flökunarhnífinn undir koddanum sínum. Það er annar bragur á samfélaginu á Suðurnesjum en heima á gamla góða Sigló á þessum árum – og ekki einasta að þessi sjávarpláss í suðri og norðri séu afgirt jafn ólíkri náttúru og landkostum og hugsast getur, heldur verður þess líka vart hvað nútíminn bankar miklu harðar á dyr í hinni villtu og veraldarvönu Keflavík heldur en norður á þeim þjóðholla Sigló sem haldið hefur ró sinni hvað sem á hefur gengið í gegnum tíðina – og þá ekki síður í gamla siði. Á meðan síldin flæddi inn á Siglufjörð flóði allt í víni og vænum mat í kringum herstöðina í suðri sem kynnti fyrir Íslendingum allt það nýjasta sem var að gerast í heiminum jafn hratt og hressilega og alda breytinganna reið yfir Ameríku og Evrópu. Þar bar auðvitað rokkið hæst sem hristi heldur

Ein af Douglas DC-6 flugvélum Loftleiða.

betur upp í landsmönnum, enda enginn venjulegur hljómflutningur á ferðinni þar sem gargandi söngurinn í síendurteknu viðlaginu bar á stundum hljóðfærasláttinn ofurliði; annað eins höfðu menn auðvitað ekki heyrt í fásinninu fram til þessa – og þegar stjörnur á borð við Bill Haley vestur í Bandaríkjunum skutust á toppinn um miðjan sjötta áratuginn með lögum eins og Rock Around the Clock, vissi fólk bæði vestan hafs og austan að það yrði ekki aftur snúið. Í miðju Atlantshafinu barst þessi kraftmikli hljómur ofan af Velli eins og hver önnur áminning um aldahvörf – og gott ef krakkar og ungmenni voru ekki byrjuð að klæða sig öðruvísi en áður þekktist, alltént var farið að sjást til kvenna í þröngum síðbuxum upp í aðþrengt mittið sem var óneitanlega nokkuð skrýtin sjón að sjá – og þær sem enn voru í pilsum voru farnar að stytta þau upp fyrir hnésbót og vera í öllu falli frjálslegri til fara en þekkst hafði um og upp úr seinna stríði. Hér skipti auðvitað miklu máli að sjónvarpið var komið til sögunnar, jafnvel úti í miðju Atlantshafi, en um sama leyti og Bill Haley byrjaði að rokka út

Skátafélagið Ernir í Keflavík. Birkir í fremstu röð fyrir miðju. Vinur hans Þórir Baldursson er annar frá vinstri í efri röð. 14 Birkir fyrir miðju, 17 ára gamall markmaður hjá KFK.

í gegn fékk bandaríski herinn á Miðnesheiði leyfi til sjónvarpsútsendinga innan herstöðvarinnar, en fram að því hafði Kanaútvarpið hljómað á miðbylgjunni um nokkurra ára skeið og gefið mönnum tóninn fyrir það sem koma skyldi. Þetta voru alger nýmæli uppi á köldum klakanum og slík undur og stórmerki fyrir íslenska starfsmenn innan girðingar að þá rak í vörðurnar þegar þeir reyndu að lýsa þessum ósköpum fyrir óbreyttum Suðurnesjamönnum niðri í bæ. Sendingar Kanasjónvarpsins náðust í fyrstu lítt út fyrir Vallarsvæðið, en eftir því sem sendistyrkurinn var aukinn á næstu árum gátu æ fleiri íbúar á suðvesturhorni landsins náð fjölbreyttri dagskránni sem var borin uppi af bandarískum skemmtiþáttum og bíómyndum – og þar var engum frönskum barnamyndum til að dreifa eins og maður hafði vanist norður á Sigló heldur alvöru reiðmönnum eins og Roy Rogers og Kit Carson og svo náttúrlega norskættaða leikaranum James Arness í myndaflokknum Gunsmoke þar sem hann túlkaði hörkutólið Matt Dillon með þvílíkum tilþrifum að hvorki fyrr né síðar hefur nokkur lögga í villta vestrinu verið jafn sannfærandi. Þá var heldur ekki ónýtt fyrir íslenska ungviðið að kynnast ævintýrum Rin Tin Tin og Lassie, að ekki sé talað um svaðilfarir Súpermanns sem flaug um skjáinn í skikkju sinni göldróttri. Hér kvað við nýjan tón og hér mættust líka tveir harla ólíkir menningarheimar, svo jaðraði við býsna alvarlegan árekstur. Alltént hafði íslenska lögreglan ekki áður verið kvödd að heimahúsi vegna heiftarlegs rifrildis hjóna sem deildu hart og lengi um afþreyingu kvöldsins; konan vildi skemmtiþátt Svavars Gests á meðan

karlinn vildi ekki heyra minnst á það volæði og heimtaði að sjá hinn eina sanna Bonanza. Það var líkast því sem öðrum vonum og væntingum hefði allt í einu skolað á land – og fyrir vikið breyttust gildin; með sjónvarpinu fylgdu ágengar auglýsingar um það hvernig unga fólkið og þá einkum stelpurnar ættu að klæða sig og snyrta og hvernig þær yrðu yfir sig hamingjusamar ef þær fengju í hendur nýjustu heimilistæki á borð við ryksugu og ristavél, hrærivél og hreingerningatól sem áttu að virka eins og töfrar inni á gljáandi og sólríkum heimilum þeirra. Þetta var allt saman frekar skrýtið í huga litla alþýðupiltsins sem fremur en angandi eldhúsa minntist matargerðar inni í miðstöðvarklefa á þessum brokkgengu tímum og var vanur því að hneppa koti sínu í þykka ullarsokkana sem hvort tveggja var að öllum líkindum að detta úr tísku. Það er eins og maður lifi tímana tvenna á þessum barnsaldri íslenska lýðveldisins – og enda þótt nútíminn sé spennandi með öllum sínum nýjungum, vil ég samt ekki eldast of hratt – og held þéttingsfast fram eftir öllum unglingsaldri í þróttmikið skátastarfið í bænum, þar sem spilað er og sungið fram eftir öllum kvöldum með hljómvísum strákum á borð við Þóri Baldurs; hvergi líður mér nefnilega betur en á öllum þeim skátamótum sem ég sæki og færa mér þær þrautir allar og verkefni sem hugurinn girnist mest á þessum ærslafullu árum þegar maður getur fundið fróun sína í að hnýta og leysa einn og sama rembihnútinn svo tímunum skiptir, en helst kem ég þó sjálfum mér á óvart með því að læra smám saman á gítar, sem ekki er galið í ging-gang-gúllí-söngvunum öllum.


40

VÍKURFRÉTTIR

Þekking í þína þágu

Gleðileg jól kæru nemendur Óskum öllum nemendum og Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.

mss.is

SAGNASPREK úr Borgarfirði – Sögur og sagnir nefnist ný bók eftir Braga Þórðarson rithöfund á Akranesi. Þetta er 21. bók höfundar um fólk og mannlíf á Akranesi og í Borgarfirði. Bókaútgáfan Emma.is er útgefandi bókarinnar. Bókin er eingöngu fáanleg sem rafbók og seld á amazon.com, eins og aðrar bækur Braga, sem allar eru uppseldar í venjulegum útgáfum. Hljóðbækur Braga eru aftur fáanlegar hjá e-Bækur.is. M.a efnis þessarar nýju bókar eru:

Sendum íbúum allra sveitarfélaga á Reykjanesi okkar bestu jóla- og nýárskveðjur. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Ekkjan sem endurheimti börnin sín Kraftakonan Kristín Pálsdóttir Af Þórði bónda í Haga Skorradalsvatn – þjóðsögur Hraustir Borgfirðingar Meiðyrðamál vegna líkræðu Draumar og reimleikar Kerlingabækur Úr ýmsum áttum „Í þessu bókarkorni eru ýmsir þættir, sem ég hef skrifað á undanförnum árum samhliða öðrum bókaskrifum. Fæstir þeirra hafa birst áður,“ segir

ÓSKUM HEIMAMÖNNUM

GLEÐILEGRA JÓLA

OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI

fimmtudagur 15. desember 2016

Bragi Þórðarson. Fyrsti þátturinn, um ömmu mína Kristbjörgu Þórðardóttur og afa minn Ásmund Þorláksson, birtist að hluta til í bók minni ’Æðrulaus mættu þau örlögum sínum’- 1996. Nú hef ég endurskráð þáttinn og bætt við nánari upplýsingum, sem ég fékk eftir útkomu þeirrar bókar frá föðursystkinum mínum. Stuðst er við frásagnir

systkinanna og samtímaheimildir. Kraftakonan Kristín Pálsdóttir var forkur dugleg, mikil ferðakona og vílaði ekki fyrir s é r vo s bú ð o g slark. Ólíkt öðrum konum notaði hún tóbak og þótti brennivín býsna gott. Af hreysti hennar eru sagðar ótrúlegar sögur, nok krar þ eirra eru skráðar hér. Þórði í Haga kynntist ég persónulega árið 1962 þegar fjölskylda okkar Elínar setti upp sumarbústað í landi hans. Í þættinum rifja ég upp þau góðu kynni og aðrar frásagnir sem lýsa kjarki hans og þrautseigju. Margir hafa spurt: Hver var Þórður í Haga? Er hann raunverulegur bóndi, eða persónugervingur íslenska bóndans frá liðinni tíð? Þeirri spurningu verður ekki svarað hér, en þeir sem kynntust honum gleyma aldrei bóndanum veðurbarða, sem hélt sínu striki í meira en 100 ár. Í næsta kafla á eftir eru þjóðsögur um Skorradalsvatn. Hraustir Borgfirðingar. Í þættinum er sagt frá séra Snorra á Húsafelli og Kvíahellunni frægu. En aðalefni þáttarins er um Vigfús sterka Auð-

unsson á Kvígsstöðum í Andakíl sem var hálfgerð þjóðsagnapersóna vegna krafta sinna. Meiðyrðamál vegna líkræðu er þáttur um Eyjólf Magnússon ljóstoll. Hann lærði bókband í Reykjavík, en mun einnig hafa verið við bóklegt nám um skeið. Stundaði aðallega barnakennslu í Borgarfirði, Stafholtstungum, Hvítársíðu og Reykholtsdal. Á námsárum sínum í Reykjavík innheimti Eyjólfur ljóstolla og fleiri gjöld og fékk hann þá auknefnið ljóstollur. Eyjólfur var vínhneigður og laus í rásinni. Í þessum þætti hef ég safnað flestu því sem ég hef heyrt frá honum sagt og lesið um hann. Aðrir þættir í bókinni, Draumar og reimleikar, Kerlingabækur og sagnir úr ýmsum áttum.

Jólatréssala

hefst laugardaginn 10. desember kl. 14:00 Í ár selur Kiwanisklúbburinn Keilir jólatré í porti Húsasmiðjunnar á Fitjum.

Opið virka daga kl. 17–20 og um helgar kl. 14–20 Hamradal 11 – 260 Reykjanesbæ Aðsetur: Rauðagerði 25 – 108 Reykjavík // Sími:517 0900 - 695 3770 www.kaelivirkni.is

NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA 201 66 201 201 66 201

frétta Víkurfrétta urVíkur iðaleikur Skafmiðaleik frétta Skafm Víkurfrétta urSuður nesjum iðaleik naur Skafm nesjum versla Víkur ogversla ááSuður iðaleik na Skafm nesjum og og verslana á Suðurnesjum og verslana á Suður

Jólalukku miðum í Nettó því það verður dregið 21. og 24. des.

Jólatré - norðmannsþinur - fura - greni - leiðiskrossar- skreyttar greinar Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála


fimmtudagur 15. desember 2016

„Ég svaf með hann í fanginu og var vakandi fram eftir öllu til að klára að hlusta á hann“

Jólaspjall:

Spiladós ömmu í uppáhaldi Ástdís Pálsdóttir, sálfræðinemi og söngfugl úr Borgarnesi er búsett í Reykjanesbæ og kemst í jólaskapið þegar hún horfir á kvikmyndina Notting Hill. Sem ung stúlka svaf hún með jólaplötu Jóhönnu Guðrúnar í fanginu og vakti fram eftir við að hlusta á hana. Það er hennar eftirminnilegasta jólagjöf. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Notting Hill, þótt það sé ekki jólabíómynd þannig lagað. En það var uppáhalds bíómyndin hennar ömmu og við horfðum alltaf á hana saman á jólunum. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Ég treysti ennþá á mömmu og pabba að óska öllum nær og fjær gleðilegra jóla fyrir mig, þau senda alltaf út jólakort. Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Ég fer alltaf í kirkju á aðfangadagskvöld Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Geisladiskurinn Jól með Jóhönnu Guðrúnu. Ég svaf með hann í fanginu og var vakandi fram eftir öllu til að klára að hlusta á hann einu sinni áður en ég færi að sofa.

41

VÍKURFRÉTTIR

Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Ég man mest eftir því þegar við héldum jólin fyrir norðan hjá ömmu. Amma er mikið fyrir jólin og var dugleg að troða mér í alls konar jólasveinabúninga og fannst það voða sætt, mér fannst það ekki. Hvað er í matinn á aðfangadag? Hangikjöt og uppstúfur, við höfum líka alltaf kartöflumús að hætti Óla frænda með. Það er besta blandan. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Þau eru næstum komin þegar að tengdamamma byrjar að baka jólasortirnar, annars eftir síðasta prófið í jólaprófatíðinni. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég bjó í tvö ár í Noregi með mömmu og pabba, það var voðalega huggulegt. Við hlustuðum á messuna í útvarpinu og héldum í okkar íslenska sið. Get ekki hugsað mér að vera erlendis í dag á jólunum.

Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Ég varð frekar vonsvikin þegar ég fann bréf sem ég skrifaði jólasveininum uppi á skáp í eldhúsinu um mitt sumar þegar ég var 8 ára. Ég manaði mig svo upp í að segja mömmu og pabba frá því að ég vissi þetta á meðan við vorum í sundi. Þá kallaði ég þetta upp og stakk mér svo í kaf og reyndi að koma ekki upp aftur fyrr en þau væru farin í heita pottinn. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Já, það er kirkjan hennar ömmu. Hún er með ljósi og spiladós og er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Hvernig verð þú jóladegi? Ég vil helst ekki fara úr náttfötunum á jóladegi. Ég er yfirleitt að lesa bók og hafa það notalegt. Við fjölskyldan förum samt yfirleitt alltaf í göngutúr eða í bíltúr á jóladag. Ég ætla reyndar að spila Jibber Jabber með fjölskyldunni á jóladag í ár, bara til þess að geta gert grín að pabba.

Kaupfélagi Suðurnesja sendir félagsmönnum sínum bestu óskir um

gleðileg jól


42

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

Meira en 400 manns hafa farið í fjarnám ●●í Menntastoðum hjá MSS Menntastoðir eru undirbúningsnám fyrir frumgreinadeildir Háskólanna eða fyrir nemendur sem stefna á frekara iðnnám. Markmið með námsleiðinni er meðal annars það að veita fullorðnum námsmönnum tækifæri til að ljúka almennum bóklegum greinum á stuttum tíma og taka þannig fyrstu skrefin að frekara námi. Rúmlega 420 nemendur hafa lokið námsleiðinni hjá MSS og hefur stór hluti nemenda haldið áfram í meira nám. Menntastoðir hafa reynst mörgum fullorðnum námsmönnum stuðningur og hvati til þess að halda áfram í námi, til dæmis á háskólabrú Keilis og svo í háskólanámi. Nemendahópur Menntastoða er fjölbreyttur og á öllum aldri. Fólk með mismunandi bakgrunn og reynslu. Sjómenn, atvinnumenn í fótbolta,

Jólin

ERU MÆTT Í DRAUMALAND. FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM. METTE DITMER - JUST JELLYBEAN - ÍSLENSK HÖNNUN. FALLEGAR LEIÐISGREINAR OG LEIÐISVENDIR.

DRAUMALAND TJARNARGÖTU 3, 421-3855 VIÐ ERUM Á FACEBOOK.

OPIÐ ALLA DAGA VIKUNAR

Jólagjöfina færðu hjá okkur

Rúrik Gíslason

Frábær tilfinning ■■Ég lauk við fjarnám frá Menntastoðum fyrir tveimur árum og tilfinningin að ná þeim áfanga var frábær. Fjarnámið frá Menntastoðum er vel sett upp, viðmót kennara og starfsmanna skólans var gott og greinilegt er að lagt er upp með að hafa hvetjandi áhrif á nemendur sem byggir upp sjálfstraust í námi, sem að skilar svo betri námsárangri. Námið í Menntastoðum er frábær grunnur fyrir næstu námsskref og fann ég hvað það kom sér vel að hafa farið í Menntastoðir þegar ég hélt námi mínu áfram eftir útskrift. Með jákvæðu hugarfari, skipulagningu og metnaði tókst mér að ljúka við námið á tilsettum tíma, þrátt fyrir búsetu erlendis og annir í vinnu. Fyrirlestrar og beinar útsendingar frá vinnuhelgum eru eins og best

Þórey Kristín Sveinsdóttir

Get núna aðstoðað börnin í náminu ■■Þegar ég hóf nám við MSS gerði ég það fyrir sjálfa mig til að auka sjálftraust mitt og efla þekkingu mína. Eftir þennan vetur er ég fær um að aðstoða krakkanna mína, sem eru á öllum skólastigum, við nám og það sem fylgir því. Að vera í fjarnámi er ekki auðvelt en með skipulagningu, góðum kennurum og upplýsingum á milli skóla og nemenda eru okkur allar leiðir færar.

Sindri Heiðarsson

Hefur gengið vel með sjómennskunni

Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbæ | www.siraf.is | Si01@simnet.is | Sími: 421 7104

nemendur með erlendan bakgrunn svo eitthvað sé nefnt. MSS hefur verið leiðandi í Fjarnámi í Menntastoðum og þjónustar nemendur af öllu landinu og þá sem búa erlendis. Í janúar fer af stað nýr hópur í fjarnámi Menntastoða. Námið er 10 mánaða langt og metið til allt að 50 eininga. Kennsla fer fram á netinu en boðið er upp á staðlotur á sex vikna fresti. Þetta fyrirkomulag getur verið frábær lausn fyrir þá sem eru í vinnu en hyggja á frekara nám. Miðað er við lotukennslu og því er eitt fag kennt í einu en námstækni dreifist á báðar annirnar. Opið er fyrir skráningar í fjarnám sem hefst í janúar 2017.

■■Til að byrja með var ég ekki viss um hvort að það gengi upp að vera í skóla á sjó. En svo var bara að henda sér af stað og allt hefur gengið vonum framar. Allir starfsmenn MSS koma svo mikið til móts við þarfir mínar að hálfa væri nóg. Ég er að róa í skiptakerfinu 3-1 og hef aldrei þurft að taka auka frí túr til að sinna náminu.

verður á kosið þannig að nálægðin við námið er töluverð þó svo að fjarlægðin frá skólanum sé mikil. Ég get svo sannarlega mælt með fjarnámi Menntastoða og efast ég ekki um að framtíðarnemendur skólans munu deila sömu skoðun og ég.


fimmtudagur 15. desember 2016

43

VÍKURFRÉTTIR

Eva Björk er nýlega komin frá London þar sem hún skoðaði hvað er og verður í tísku í hárgreiðslum og klippingum.

a í boll ýli áb fr

kaffitá r

frá bý

oll

kaf fitá r í bolla býli frá áR fit

kaffitár frá bý li í b

hátíð í bæ

la bol

„Að mínu mati er fólk farið að hugsa yfir höfuð betur um hárið á sér en áður. Nú höfum við tækifæri til að nota hreinni, náttúrulegri vörur og fjölbreyttar mótunarvörur. Alls kyns blásara og járn sem gefa okkur möguleika á að skarta fallegum lokkum án of mikillar fyrirhafnar. Ammoníaks-fríir litir hafa rutt sér til rúms og fólk vill upp til hópa hafa náttúrulegt fallega útlítandi hár sem auðvelt er að hrista og renna fingrunum í gegnum. Hár sem geislar af heilbrigði án geymslu og aukaefna. Fyrir þá sem fíla þurrara, grófara útlit eru til alls kyns mótunarefni til að ná fram þeirri útkomu sem óskað er eftir. Að vissu leiti er pönk, diskó og rokk ríkjandi í tísku á klæðnaði og hári, frelsi til að túlka eigin stíl,“ segir Eva.

tilefni. Auðvitað er sítt, fallegt hár líka frábært, með smá hreyfingu og látlausum topp sem hægt er að færa til eftir skapi allt frá hlið, miðju eða beint fram.

í li

Það virðist mikið í gangi í hártískunni um þessar mundir ef marka má hárgreiðslumeistarann Evu Björk Sigfúsdóttur sem rekur hárgreiðsluna Háráttu við Hafnargötu í Reykjanesbæ. Hún fór yfir það helsta í tískunni núna fyrir jólin og á komandi misserum. Hjá ungum dömum er mikið um toppa og nokkuð djarfa liti á meðan strákarnir greiða aftur eða til hliðar og eru með snúð margir hverjir.

Hjá dömunum er ég sjálf mikið að vinna með rótarskugga, náttúrulegar litasamsetningar og að ógleymdu „balayage“ sem lýsa og skyggja hárið í hinum ýmsu útfærslum. Skærir, djafir litir í hluta af hárinu eru heitir núna, einnig mjúkir jarðlitir, perluljóst, grá/öskutónar og strípur með náttúrulegu flæði. Dömur eru líka að taka áhættu og eru djarfar, stuttar, grófar klippingar, mjúkir látlausir toppar og stuttir skornir toppar eldheitir á komandi misserum, axlasíddin og aðeins síðara, mjúkar styttur, alls konar fléttur og undirklipping (undercut) sem þýðir í raun að hárið er klippt ótengt (disconnected). Litlar krullur, stórar krullur, krumpur og slétt og fallega blásið með flottri lyftingu, hreyfingu og jafnvel svolítið matt við sérstök

ka f

Stuttir skornir toppar eru eldheitir

r frá býli í bolla fitá kaf

hÁR

yfir hátíðarnar samkvæmt Evu Björk

a

Gleðilegt

Hártískan

Auglýsing um endurskoðun á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2015-2030 Strákarnir pæla mikið í hárinu á sér

Herrarnir eru fjölbreyttir og frábærir! Rolling stones, Jimi Hendrix og Bítlarnir eru áhrifavaldar um þessar mundir. Krullur eru mjög ríkjandi hjá herrum á næstu misserum og spái ég jafnvel mikilli aukningu í sjálfliðun (permanent). Beinir og jafnvel saxaðir toppar, „punk streetlook“ og vel rakað í „húðhverfu“ (skinfaid). Margir eru greiddir aftur eða til hliðar. Strákarnir pæla mikið í hárinu á sér og velja sér fleiri vörur en gömlu, góðu geltúpuna. Enn aðrir leita í létta náttúrulega, „laid back“ lúkkið. Aðrir halda því síðu og flétta eða gera snúð, jafnvel bæði sem er líka mjög skemmtilegt.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar auglýsir hér með endurskoðað aðalskipulag Reykjanesbæjar skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fyrri auglýsing birt í Lögbirting, Víkurfréttum og á vef Reykjanesbæjar 24. nóvember sl. er hér með ógild. Breytingar hafa verið gerðar á gögnum til samræmis við svæðisskipulag vegna vatnsverndar. Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 og hjá Skipulagsstofnun frá og með 15. desember 2016 til 26. janúar 2017. Tillagan er einnig aðgengileg á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 26. janúar 2017. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ eða á netfangið adalskipulag@reykjanesbaer.is. Reykjanesbæ, 15. desember 2016. Skipulagsfulltrúi

„Að mínu mati er fólk farið að hugsa yfir höfuð betur um hárið á sér en áður“ Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is

Suðurnesjamagasín á Hringbraut og vf.is


44

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

Petrína vann að bókinni Salt og Hunang í mörg ár. Í henni túlkar hún vers Biblíunnar og tengir við daglegt líf.

Hefur alltaf verið

heilluð af Biblíunni

Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@vf.is

ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM

DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.

SUÐURNES - REYK JAVÍK SÍMI: 845 0900

FINNDU OKKUR Á FACEBOOK

Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, prestur við Árbæjarkirkju, fagnaði fimmtíu ára afmæli sínu síðasta þriðjudag. Sama dag fagnaði hún útgáfu á bók sinni Salti og hunangi. Petrína ólst upp í Keflavík og tók virkan þátt í kristilegu starfi og heillaðist ung af Biblíunni. „Það eru margir sem hafa áhuga á Biblíunni en finnst hún vera svolítið óaðgengileg og erfið sem hún vissulega er,“ segir Petrína Mjöll Jóhannesdóttir sem í vikunni sendi frá sér bókina Salt og Hunang. Bókin inniheldur orð úr Biblíunni til íhugunar fyrir hvern dag ársins. Petrína segir bókina bæði til uppbyggingar og hvatningar í daglega lífinu. Petrína vann að bókinni í mörg ár og hefur valið vers og túlkað þau út frá því sem þau geta sagt okkur. „Þetta er mín leið til að sýna fólki að það er heilmikið í Biblíunni sem veitt getur svör við því sem fólk er að glíma við í hinu daglega lífi.“ Í bók Petrínu eru vers úr öllum bókum Biblíunnar en þær eru 66 að tölu. Aftast í bókinni er orðaskrá og því hægt að fletta upp íhugunum sem henta fyrir sérstakar aðstæður, eins og gleði, sorg, samskipti, erfiðleika og svo framvegis.

hafi Biblían opnast þar fyrir henni á nýjan hátt.

Eiginmaðurinn hefur umsjón með jólabakstrinum

Í gegnum tíðina hefur gegnið mis vel hjá Petrínu og fjölskyldu að halda í jólahefðirnar. Börnin hennar fjögur eru á aldrinum 14 til 25 ára og heldur fjölskyldan ennþá í þá hefð að eiga hátíðlega stund í hvert sinn þegar kveikt er á kerti á aðventukransinum. „Þessa

hefð höfum við haft síðan börnin voru lítil. Við setjumst niður, syngjum aðventusálminn, biðjum og kveikjum á kerti. Nú eru þau orðin eldri, eiginlega fullorðið fólk, en það er alltaf jafn dýrmætt að eiga þessa stund saman.“ Eiginmaður Petrínu, Ögmundur Máni Ögmundsson, hefur yfirumsjón með bakstrinum á heimilinu. „Það eru ákveðnar sortir sem við bökum alltaf og mömmukökurnar og lakkrístopparnir eru vinsælastar.“

Núvitund í Biblíunni

Við óskum samstarfsaðilum okkar á Suðurnesjum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Petrína er prestur við Árbæjarkirkju í Reykjavík. Hún ólst upp í Keflavík í stórum systkinahópi og hefur verið heilluð af Biblíunni síðan í æsku en þá tók hún mikinn þátt í kristilegu starfi. „Mér fannst Biblían alltaf svolítið erfið. Hún er svo innihaldsrík en maður áttar sig ekki alltaf á því. Það er margt í henni sem við teljum okkur vera að uppgötva í dag eins og til dæmis árvekni og núvitund en um það er fjallað í Biblíunni. „Látið hverjum degi nægja sína þjáningu,“ segir Jesús í fjallræðunni. Í Biblíunni má finna ýmis gömul sannindi sem gilda alltaf, til dæmis um það hvernig maður getur orðið hamingjusamur og lifað góðu lífi.“ Petrína segir það hafa verið mikið heillaskref á sínum tíma að fara í guðfræðideildina enda

Petrína hefur unnið að bókinni í mörg ár. Í henni túlkar hún vers Biblíunnar og tengir við daglegt líf.

„Í Biblíunni má finna ýmis gömul sannindi sem gilda alltaf, til dæmis um það hvernig maður getur orðið hamingjusamur og lifað góðu lífi“


fimmtudagur 15. desember 2016

45

VÍKURFRÉTTIR

Jólaspjall:

TÖLVUSTÝRÐ LYFJASKÖMMTUN

Jólaeplin voru miklu betri í gamla daga

GERIÐ VERÐSAMANBURÐ Á SKÖMMTUNARGJÖLDUM

Kjartan Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar segist vera mikið jólabarn, er vanafastur og í huga hans voru jólaeplin alltaf miklu betri í gamla daga. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Elf, hún er algerlega frábær og fjölskyldan horfir á hana saman um hver jól og við hlæjum alltaf jafn mikið. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Þessu er blandað saman. Enn eru send nokkur kort á þá sem ekki eru á Facebook. Ertu vanafastur um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Já, mjög vanafastur og fjöl margir hlutir sem hafa sinn fasta sess um hátíðirnar. Til dæmis hef ég, alveg frá því að ég var lítill strákur, alltaf farið með föður mínum á Þorláksmessu eða aðfangadag (fer eftir veðri) og heimsótt leiði ættingja og vina í kirkjugörðum á svæðinu. Aðrir hlutir eru jafnan í föstum skorðum, bæði hvað varðar mat, drykk og ánægjulegar stundir með fjölskyldunni.

Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Einhverra hluta vegna dettur mér í hug forláta „Pacman“ tölvuspil sem ég fékk frá bræðrum mínum þegar ég var lítill. Líklega vegna þess að þeir steingleymdu að kaupa pakka handa litla bróður sínum fyrir jólin en náðu algerlega að bæta fyrir vonbrigðin með þessu flotta tölvuspili eftir jól. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Já, fjölmargt. Eitt er hvað jólaeplin voru alltaf miklu betri í gamla daga. Hvað er í matinn á aðfangadag? Við Inga konan mín, höfum haft hamborgarhrygg alla tíð frá því við byrjuðum að búa. Það var alls ekki erfitt að koma sér saman um það þar sem svipaðar hefðir voru á heimilum okkar beggja fyrir. Hvenær eru jólin komin fyrir þér?

Ég er mikið jólabarn og finnst jólin frábær tími. Aðventan finnst mér mjög skemmtileg og finn sterkt fyrir jólunum alveg frá því að aðventan hefst.

Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.

Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég hef aldrei prófað það og langar ekkert sérstaklega til þess. Ég er þó ekkert að útiloka að það geti gerst síðar. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Hvað meinarðu, er eitthvað leyndarmál?

Hringbraut 99 - 577 1150

Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Já, ég á nokkra uppáhalds muni sem nýttir eru til að skeyta jólatréð og hefur verið safnað í gegnum árin.

16 20 16 20 16 20 16 20

Hvernig verð þú jóladegi? Slaka á með fjölskyldunni fram eftir degi og undanfarin ár höfum við síðan farið í kaffiboð þegar líður á daginn.

ta rétta urfrét Víkurf urVík eikur ðaleik fmiðal Skafmi rétta urfesju Ska m Víkurf ur urn eik ðal Suð á ta fmi a rét m Ska slan esju ver Vík urn og ur Suð eik aá slan verðal Ska esjum ogfmi og verslana á Suðurnesjum og verslana á Suðurn

„ Ég finn sterkt fyrir jólunum alveg frá því að aðventan hefst“

NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA

Jólalukku miðum í Nettó því það verður dregið 21. og 24. des.

Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um

gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!

H

20

0

F

RÚÐAN

BÍLRÚÐUÞJÓNUSTA SMIÐJUVÖLLUM 6. REYKJANESBÆR

S:421-1500

Þvottahöllin

Brekkustíg 41

Bílaþjónusta


46

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

Funk

á fóninn þegar ryksugan er dregin fram DJ Egill Birgisson hefur þeytt skífum með „landsliðinu“ í rappi

Egill Birgisson, plötusnúður úr Grindavík, hefur spilað með helstu stjörnum rapp og hip-hop senunnar á Íslandi en hann byrjaði fyrst að fikta með DJ græjur fyrir sex árum með Birni Val, besta vini sínum. Á stuttum tíma náðu þeir býsna langt og voru fljótlega farnir að spila í mekka rappsins, á skemmtistaðnum Prikinu, og með Emmsjé Gauta hér og þar um landið. Hildur Björk Pálsdóttir hildur@vf.is

„Þetta byrjaði allt saman sumarið 2010. Við vorum að byrja að fara til Reykjavíkur að skemmta okkur og Prikið var mjög vinsæll staður hjá okkur strákunum. Þar var DJ að nafni Daníel, betur þekktur sem Danni Deluxx og hans fag heillaði mig mikið. Ég var búinn að hugsa um þetta í smá tíma en það er frekar dýrt að byrja í þessu sporti. Ég nefndi þetta við Bjössa og þá sagðist hann líka hafa verið að hugsa um það sama en við höfðum ekkert rætt það áður. Við fórum í Pfaff og keyptum okkar fyrstu græjur sem hétu „Mixtrack Pro“ frá Numark, tvær fyrir hvorn.“ Þeir félagar spiluðu svo í fyrsta skipti saman á veitingastaðnum Kantinum á Sjómannahelginni í Grindavík. „Jóhann Davíð, eða Joey D eins og hann er kallaður, leyfði okkur að prófa að spila og það má segja að þetta hafi verið ást við fyrstu sín,“ segir Egill. Stuttu seinna voru þeir farnir að spila reglulega á skemmtistaðnum Center og á böllum Fjölbrautaskóla Suður-

nesja. Þeir settu sér svo þau markmið að spila á Prikinu, í Tuborg tjaldinu á Þjóðhátíð í Eyjum og Bestu útihátíðinni sem var haldin á þessum tíma. Þegar Egill og Björn höfðu verið að spila hér og þar í nokkra mánuði ákváðu þeir að prófa að senda Prikinu tölvupóst. „Við spurðum hvernig staðan væri hjá þeim, hvort það væri möguleiki að fá að spreyta sig. Nokkrum dögum seinna fengum við svar um að þeir hefðu einmitt verið að missa tvo af sínum bestu mönnum sem væru að fara til útlanda í nám. Við spiluðum svo í fyrsta skipti á Prikinu veturinn 2010. Þann vetur spiluðum við nánast allar helgar, fimmtudag, föstudag og laugardag.“

Emmsjé Gauti hringdi

Þeir spiluðu eitt sinn á fastakvöldi tónlistarmannsins Emmsjé Gauta á Prikinu sem hét Í freyðibaði með Emmsjé Gauta. „Eftir helgina hringdi Gauti í okkur, þakkaði okkur fyrir og bauð okkur að koma með sér til Akureyrar. Hann var að fara að rappa og vildi fá okkur til þess að þeyta skífum um kvöldið. Í kjölfarið hófst þetta samstarf.“

Egill starfar við grafík vinnslu í Domino’s körfuboltakvöldum.

Egill og Björn spiluðu með Joey D í Tuborg tjaldinu á Þjóðhátíð næstu þrjú árin og Egill spilaði einnig á Bestu Útihátíðinni. „Það var mikil upplifun. Það má segja að öllum markmiðunum sem við settum okkur hafi verið náð. Við höfum báðir verið að síðan. Þetta ár hefur reyndar verið mjög rólegt hjá mér en Björn Valur hefur tekið þetta skrefinu lengra. Hann fór til Los Angeles í nám í „pródúseringu“ og er farinn að gera eigin tónlist. Hann kom súkkulaðibrúnn heim og gerði meðal annars þrjú lög fyrir plötu Emmsjé Gauta, Vagg ogVelta, en eitt af þeim er Reykjavík, sem er eitt vinsælasta lag landsins í dag,“ segir Egill. Egill starfar nú á tveimur stöðum og hefur fremur hægt um sig í tónlistinni en segist búast fastlega við því að byrja að semja eigin tónlist á næstunni. „Ég starfa í ljósabúðinni Lumex svo það er mikið að gera núna í desember og svo er ég að sjá um grafík vinnslu við þættina Domino’s Körfuboltakvöld. En það sem stóð upp úr á árinu var snjóbrettahátíðin AK Extreme, sem haldin er á Akureyri árlega. Ég var fenginn til að sjá um tónlistina í þeirri keppni, þar á meðal gámastökkinu sem sýnt var í beinni útsendingu á

Þessi mynd var tekin þegar Egill og Björn þeyttu skífum saman í fyrsta skipti.

Stöð 2 sport. Ég mæli eindregið með að fara á næsta ári, þetta er fyrir alla aldurshópa og keppnin er þvílíkt augnakonfekt.“

Diplo er fyrirmyndin

Spurður út í hans uppáhalds tónlistarfólk nefnir Egill raftónlistarmanninn Diplo sem er meðlimur hljómsveitarinnar Major Lazer og tvíeykisins Jack Ü ásamt Skrillex. „Diplo er mín fyrirmynd í tónlistinni. Allt sem hann snertir verður vinsælt. Hann er að spila öll kvöld um allan heim og ef hann er ekki að því þá er hann að búa til tónlist sem fær yfir 100 milljónir áhorfa á YouTube. Það mætti eiginlega segja að hann sé einum of góður í þessum bransa. En um þessar mundir er ég líka mikið að hlusta á rapp, nema þegar ég er heima. Þar dett ég meira í gamalt funk, þegar ryksugan er dregin fram eða ég er að gera mig til fyrir eitthvað tilefni.“ Garðar Örn Arnarson, dagskrárgerðarmaður á Stöð 2 og kunningi Egils, hafði samband við hann og

sagðist vera að leita að starfsmanni til að sjá um útsendingar á körfuboltaleikjum, en Garðar stýrir vikulegum sjónvarpsþætti á Stöð 2 Sport sem heitir Domino’s körfuboltakvöld og er sýndur í beinni útsendingu. „Starf mitt felst í því að stjórna útsendingunni á körfuboltaleikjum ásamt því að klippa saman aðalatriðin til að sýna í hálfleik. Í Körfuboltakvöldum sé ég um grafík vinnslu eins og textaskiltin sem birtast á skjánum með nöfnum sérfræðinganna og „tístin“ sem við birtum frá Twitter. Þetta starf er algjör snilld, það er sterkt að komast þangað inn og ég er þakklátur Garðari fyrir tækifærið. Það er aldrei leiðinlegt að vinna með fagmönnum eins og honum, Tómasi Þórðarsyni og Stefáni Geirmundssyni.“ Hann segir vinnuna á bak við þættina margfalt meiri en fólk heldur og að sér þætti gaman að sýna áhorfendum hvað gerist á bak við tjöldin. „Garðar og Stefán, sem sjá um meiripart vinnunnar eiga stórt hrós skilið.“

„Það má segja að þetta hafi verið ást við fyrstu sýn.“


fimmtudagur 15. desember 2016

VÍKURFRÉTTIR

Jólalegur sönghópur í Stapa ■■Sönghópur Suðurnesja söng inn jólin í Stapa á fyrsta í aðventu en þá hélt kórinn jólatónleika. Hinn landskunni Magnús Kjartansson stjórnar kórnum og fór hann að venju oft á kostum þegar hann kynnti lögin og spjallaði á milli laga. Kórinn hefur aldrei verið betri og flutti mörg mjög skemmtileg jólalög fyrir fullum Stapa. Nokkrir félagar í kórnum sungu einsöng með honum en gestasöngkona í nokkrum lögum var Jana María Guðmundsdóttir. Hún sló í gegn með frábærum söng og framkomu. VF var á tónleikunum og tók myndir sem fylgja fréttinni.

ATVINNA

STARFSMAÐUR Í TÆKNIDEILD

Grindavíkurbær óskar eftir að ráða starfsmann í tæknideild bæjarins í 50% stöðugildi Verksvið er m.a: • Skráning mannvirkja inn í Landsskrá fasteigna og landupplýsingakerfi. • Skönnun og skráning teikninga • Gerð reikninga og útsending bréfa • Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa • Skráning í gæðastjórnunarkerfi • Eftirfylgni ítrekunarbréfa • Almenn aðstoð á skipulags- og umhverfissviði Menntunarkröfur og reynsla: • Háskólamenntun í lögfræði • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum í málaflokkum skipulag- og byggingarmála skilyrði •Reynsla og þekking á OneSystems skjalastjórnunarkerfi skilyrði Lykileiginleikar: • Góð íslenskukunnátta • Góð almenn tölvukunnátta • Sjálfstæði og öguð vinnubrögð Grindavík er 3.300 manna bær sem hefur vaxið hratt í seinni tíð. Íbúafjölgunin er um 25% undanfarin 10 ár. Grindavík er einn öflugasti útgerðarbær landsins með kraftmiklum og vel reknum útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum. Ferðamönnum hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár í takt við aukna ferðaþjónustu og Bláa lónið, fjölsóttasti ferðamannastaður landsins, er í anddyri bæjarins. Grindavík leggur áherslu á fjölskyldugildi, er einn öflugasti íþróttabær landsins, með niðurgreidda íþróttaiðkun grunnskólabarna, niðurgreiddan skólamat og hagstæð leikskólagjöld. Grindavík er landmikið bæjarfélag, náttúrufegurð er mikil, stutt í margrómaðar gönguferðir, fuglalíf mikið í klettunum meðfram ströndinni við Reykjanestá, og góður 18 holu golfvöllur í skemmtilegu umhverfi við sjóinn. Nánari upplýsingar um starfið veitir: Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs. armann@grindavik.is Umsóknir berist á netfangið armann@grindavik.is Umsóknarfrestur er til og með 23. desember, kl. 12:00. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi

Óskum félagsmönnum okkar og Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða

47


48

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

VÖKVAR ensku jólakökuna

REGLULEGA ●●Gunnhildur Þórðardóttir og Douglas Arthur Place eru með bæði enskar og íslenskar jólahefðir á heimili sínu

G

unn hi ldur Þórðardóttir, Douglas Arthur Place og synir þeirra fjórir eru mikil jólabörn. Douglas er frá Bretlandi og blanda þau saman enskum og íslenskum jólahefðum. Ein þeirra er að baka enska jólaköku. Gunnhildur reynir alltaf að vera búin að baka kökuna fyrir 1. desember. ,,Kökuna ,,vökva” ég svo nokkrum sinnum í viku með sjerrí, brandí eða einhverju álíka víni. Enska jólakakan er góð bæði nýbökuð eða vökvuð í fjórar vikur,” segir hún. Enska jólakakan er stútfull af góðum þurrkuðum ávöxtum, dökku súkkulaði, hnetum og kryddi. Þegar Gunnhildur er orðin ánægð með kökuna eftir vökvunina rúllar hún þunnum möndlumassa ofan á og gerir hvítan hjúp yfir og

skreytir með jólaskrauti sem tengdamóðir hennar gaf henni og hefur verið lengi í fjölskyldunni; hreindýri, jólasveini, jólakveðju og silfurborða. Ensku kökuna hefur Gunnhildur bakað í mörg ár og hlakkar alltaf jafn mikið til, bæði að búa hana til og að borða. Að auki baka þau fjölskyldan hefðbundnar íslenskar smákökur eins og piparkökur, vanilluhringi og hnetusmjörskökur.

Taka jólapeysu-mynd

Jólaskreytingarnar á heimili fjölskyldunnar eru að íslenskum sið með ljósum og öllu tilheyrandi. Gunnhildur segir meira gert úr skreytingum á Íslandi en í Bretlandi. ,,Aðventuljós eru vinsæl í Bretlandi, líkt og hér en ekki er endilega skreytt, heldur meira um jólaljós en stundum ein og ein

Fjölskyldan í jólaskapi í jólapeysum.

sería.” Sá siður að öll fjölskyldan klæði sig í jólapeysur er vinsæll í Bretlandi og taka þau fjölskyldan oft af sér mynd í peysunum og senda svo vinum og ættingjum myndina á jólakorti.

Kalkúnn á jóladag

Allir í fjölskyldunni eru hrifnir af hangikjöti og öllu sem því tilheyrir og því er það alltaf á hátíðarborðinu á aðfangadagskvöld. Á jóladag er svo yfirleitt kalkúnn á boðstólum en það er ekta breskur jólamatur. ,,Ég undirbý kalkúninn alltaf eftir ráðum Nigellu Lawson en hún er alveg frábær kokkur. Uppáhalds bókin mín er „How to be a domestic goddess“ sem tengdamamma gaf mér.” Þá útbýr Gunnhildur alltaf svokallað ,,trifle” sem er gamall og sígildur lagskiptur eftirréttur. Í rétti Gunnhildar er hlaup, mandarínur, perur, súkkulaði, rjómi, makkarónukökur og fleira. Réttinn ber hún alltaf fram í hárri, glærri skál svo að lögin sjáist.

Hátíðleg ensk messa í Hallgrímskirkju

Enska jólakakan skreytt með jólaskrauti sem lengi hefur verið í tengdafjölskyldu Gunnhildar.

Á aðfangadag fara Gunnhildur og Douglas alltaf með synina í barnamessu í Keflavíkurkirkju. Oftast fara þau líka í ensku messuna í Hallgrímskirkju og segir Gunnhildur hana alltaf vera hátíðlega og fallega. Jólatréð skreyta þau yfirleitt 16. desember en þá á Douglas afmæli. ,,Mér finnst of seint að skreyta tréð á Þorláksmessu eins og gert var á mínu æskuheimili.” Helsta markmiðið hjá fjölskyldunni um jólin er þó alltaf umfram allt að njóta jólanna, slappa af heima, njóta þess að leika með nýju gjafirnar og fara saman í göngutúra.

Óskum bæjarbúum gleðilegra jóla með ósk um friðsæla jólahátíð og farsælt komandi ár Þökkum fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.

Það er alltaf mikið fjör á jólunum. Helsta markmiðið hjá Gunnhildi, Douglas og sonum er að njóta jólanna, slappa af heima, leika með nýju gjafirnar og fara saman í göngutúra.

,,Ég undirbý kalkúninn alltaf eftir ráðum Nigellu Lawson“

16 20 16 20 16 20 16 20

Authorized Service Contractor Fálkavöllur 7 - 235 Keflavíkurflugvelli - Sími 420 0900 - www.express.is

tta frétta urfré Víkur kurrVík leiku iðalei afmiða Skafm tta fré ur Sk um Vík r esj ku rn lei ðu Su iða á tta afm na Skog sla ur esjum ver Vík rnfré ðu kuárSu lei iða na sla afm ver Skog rnesjum og verslana á Suðurnesjum og verslana á Suðu

NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA

Jólalukku miðum í Nettó því það verður dregið 21. og 24. des.


fimmtudagur 15. desember 2016

49

VÍKURFRÉTTIR

Jólaspjall:

Hristir af sér konfektvímuna með göngutúr Grindvíkingurinn Ragnheiður Eyjólfsdóttir skreytir gluggann í borðstofunni alltaf af mikilli natni fyrir jólin. Glugginn er nokkurra metra hár og ein jólin þegar hún var komin átta mánuði á leið lét hún það ekki aftra sér frá því að klifra upp stiga og skreyta gluggann. Jólabíómyndin sem kemur þér í jólaskapið? Elf og National Lampoon’s Christmas Vacation eru alltaf sígildar en svo finnst mér The Holiday líka alveg dásamleg. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Ég lagði á árum áður mikinn metnað í jólakortin, þau voru stór og flott og alltaf með mynd. Svo kom það upp eitt árið að við fórum til Flórída í jólafrí og jólakortin gleymdust. Ég var með samviskubit yfir því en það kom í ljós að lífið gekk sinn vanagang og ekkert alvarlegt tjón hlaust af svo eftir þetta hef ég kosið að halda áfram að „gleyma“ kortunum. Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf yfir hátíðarnar? Ég er kannski helst vanaföst í jólaskrauti og þannig. Borðstofuglugginn, það er jólaglugginn, sem ég skreyti alltaf sjálf og þarf til þess að klifra í stiga upp í um fimm metra hæð til að ná í efsta gluggann. Ég lét mig hafa það meira að segja þegar yngri daman var á leiðinni og ég var komin tæpa átta mánuði á leið. Svo má ekki klikka á skötunni, það verður að vera skata. Undanfarin ár hafa Kristín mágkona mín og Sverrir, maðurinn hennar, haldið svakaleg skötupartý. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ég hef nú fengið margar æðislegar en ég man sérstaklega eftir rauðbleikum kuldastígvélum með hvítu skinni inn í sem við Gunnsa systir fengum alveg eins ein jólin. Þau voru með há glansandi lakki og við svifum um á þeim þessi jólin. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum á jólum? Jólaboð hjá ömmunum og þannig. Svo var það ein jólin þegar ég var krakki að við systur herjuðum mjög fast á foreldrana að fara í kirkju klukkan 18 á aðfangadag. Við höfðum stundum farið í

kvöldmessur áður. Þessi jólin var gefið grænt ljós á að fara klukkan 18 en ég var greinilega komin með matreiðsluáhugann þarna sem loðir ennþá við mig. Ég fór sem sagt að búa til karamellu en brenndi mig og fékk rosalega blöðru sem var eins og sundfit milli litla fingurs og baugfingurs. Ég lét mig hafa það að fara í kirkjuna og var með kaldan þvottapoka í hendinni. Það kom augnablik sem mig langaði mest til að standa upp og öskra en náði sem betur fer að halda aftur af mér. Það var ekkert ýtt á það aftur að fara í kirkju á þessum tíma... Hvað er í matinn á aðfangadag? Í forrétt er annað hvort humar, humarsúpa eða rósakálssúpa, það fer eftir aðföngum. Aðalrétturinn fer eftir því hverjir eru með okkur á aðfangadag. Ef mamma og pabbi eru hjá okkur þá erum við oftast með hamborgarhrygg og allt hefðbundið, annars eigum við það til að skipta yfir í nautalund. Eftirrétturinn er svo arfleifð frá ömmu Eileen sem var ensk, það er „ananasdesert“ og er það sá hluti af matseðlinum sem er ekki breytilegur. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Þegar húsið er orðið hreint, búið að skreyta jólagluggann og jólatréð komið upp er þetta komið langleiðina. Svo gera útiþurrkuð sængurföt á Þorláksmessukvöldi útslagið. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera í útlöndum um jólin? Við höfum, eins og kom fram áðan, verið í Flórída og það meira að segja tvenn jól. Áður en ég prófaði það átti ég það til að fitja upp á nefið og segja: „Hvernig getur fólk hugsað sér að vera bara í útlöndum um jólin og sleppa öllum hefðunum?“ Þetta viðhorf hefur heldur betur batnað með árunum og það er alveg inni í myndinni

að fara einhvern tíma aftur. Við höfum reyndar, þessi skipti haldið jólin hjá Herdísi mágkonu í Flórída og Marnie manni hennar, svo við höfum bara dottið inn í jólahald með fjölskyldunni, bara á öðrum stað og jafnvel byrjað jóladag á labbitúr á ströndinni. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Heimasmíðaða jólatréð er þar mjög ofarlega á lista en svo er ýmislegt fleira sem ég held upp á. Það má segja að við hjónin höfum hannað tréð í sameiningu. Ég sagði hvernig það ætti að vera en Siggi minn sá um tæknilega útfærslu sem hefur virkað svona ótrúlega vel. Hvernig verð þú jóladegi? Ég vil helst vera á náttbuxunum fram eftir degi, lesa og horfa á góðar bíómyndir og lúra smá. Það var samt alltaf nóg að gera á jóladag hjá okkur, á tímabili voru alltaf þrjú boð; hjá ömmu litlu í hádeginu, svo hjá Kristínu mágkonu og svo er ein í fjölskyldunni sem á afmæli á jóladag og við enduðum oft hjá henni um kvöldið. En þetta hefur breyst töluvert seinni ár og nú er meira verið að dóla framan af degi og svo fá voffarnir góða viðrun og mannfólkið hristir af sér konfektvímuna.

„Ég vil helst vera á náttbuxunum fram eftir degi, lesa og horfa á góðar bíómyndir og lúra smá“ Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um

gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!

Víkurbraut 1 - Reykjanesbæ - rafidn@simnet.is - www.rafidn.is Sími: 421 1768 // 899 8012 // 898 1009

ÍSLANDSBLEIKJA GRINDAVÍK

Kæliþjónusta Gísla Wium


50

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

Bókin sem lifnar við í höndum þér Keflvíkingurinn, presturinn og gamli pönkarinn Guðmundur Karl Brynjarsson gefur út ljóðabókina „Hvolf“. Ævisaga, minningar og draumar.

Vinur minn sagði mér að þetta kallaðist bókverk þegar bókin sjálf tekur þátt í því sem í henni stendur. Meira en bara innihaldið,“ segir Keflvíkingurinn Guðmundur Karl Brynjarsson, prestur í Landakirkju í Kópavogi en hann lét óvanalega hugmynd að ljóðabók verða að veruleika nú á dögunum. Ljóðabókin heitir „Hvolf “ og blaðamaður spyr fyrst út í þá hugmynd. „Já, hún svona snýr að þér í hillunni en þú kemst að því þegar þú opnar hana að þú þarft að snúa henni á hvolf til þess að lesa hana. Það sem tekur við þegar þú opnar bókina eru blaðsíðurnar umluktar himnu sem þú þarft að rífa til að komast inn í bókina. Svo fæðist bókin og lifnar við í höndum þér þegar þú lest hana. Ég fékk hugmyndina í kringum nafnið á bókinni. Því himnan heldur utan um allt saman. Sem himna og himinn. Hún tengir bæði fyrsta og síðasta ljóðið og heldur utan um allt saman,“ segir Gummi Kalli sem margir Keflvíkingar muna eftir en hann bjó við Krossholt í Keflavík framyfir tvítugt.

Baldinn í bítlabæ

Guðmundur var á köflum baldinn ungur peyi í Bítlabænum og hann tengdist tónlist eins og margir en ekki bítlatónlist. Hann var í pönkhljómsveitinni Vébandinu sem unglingur en bandið var endurvakið fyrr á þessu ári þegar hann varð fimmtugur. Þá var blásið til tónlistarveislu í Lindakirkju þar sem líka var spiluð hefðbundnari tónlist eftir Gumma. Pönkið kom nýju vinum hans á óvart en gömlu vinunum úr Keflavík sömuleiðis það nýja líka. Skemmtileg tvenna hjá kappanum. En aftur að ljóðabókinni sem er sú fyrsta hjá nýja ljóðskáldinu. Guðmundur hefur verið að skrifa handrit að barnaþáttum sem hafa verið notaðir í sunnudagaskólum hjá þjóðkirkjunni. Þá þýddi hann barnabók árið 2007. Hún heitir „Ég er frábær“ og seldist upp. Hún verður gefin aftur út í vor og hún var einmitt valin ein af þremur best þýddu barnabókunum árið 2007 sem kom mér mjög á óvart því ég var ekkert í neinum verðlaunahug. Það var mjög óvænt ánægja.“

Þá eru nokkur ljóð sem hann hefur verið að semja í skúffunni hjá honum. „En þetta er ekki skúffubók. Ég opnaði ekki skúffuna og notaði það sem ég átti til heldur fékk ég hugmyndina að þessari bók í byrjun árs og byrjaði þá að skrifa konseptið. Þetta eru að mörgu leyti minningar sem ég byrjaði að skrifa nokkuð nákvæmlega, en gerði síðan að gátum sem lesandinn myndi jafvel upplifa sem eitthvað allt annað en stendur í bókinni. Svo kem ég einnig inn á drauma sem ég man eftir úr æsku. Að sumu leyti er þetta ævisaga mín til svona 24 ára aldurs, sem er þó ekki augljóst, nema fyrir mér.“

Hvernig varð Gummi Kalli prestur? Þegar ég kem aftur til Keflavíkur og hitti gamla félaga sem ég þekki þar segir fólk gjarnan við mig: „Þú varst skrautlegur maður.“ Það datt engum í hug að ég ætti eftir að verða prestur og

síst af öllum mér sjálfum. Ég fann það þegar ég var um tvítugt að ég var að missa tökin svolítið á sjálfum mér. Ég var á stað sem ég vildi ekkert vera á. En þá var bara að sætta sig við það og sökkva dýpra eða fara á betri braut. Ég

Gamla testamentið

Ljóðin í bókinni tengjast mörg trúnni og Gamla testamentinu og Guðmundur segist taka persónur úr gamla testamentinu og setja þær á hvolf. „Ég hvolfi þeim inn í nútímann og set þær inn í lífið í dag. Ég hef alltaf hef verið mikið fyrir sögur úr gamla testamentinu. Finnst leiðinlegt hvað það er almennt lítil þekking á þeim, því þær eru alltaf að endurtaka sig. Ég sé mikið af fólki sem ég þekki sem minnir mann á persónur úr Gamla testamentinu. Mér fannst þetta skrautlegar persónur sem er skemmtilegt að máta við okkar raunveruleika.“

Reiðin og Rut Guðmundur segist hafa verið meira í hefðbundnum kveðskap en það er óhætt að segja að hann fari nýjar leiðir í þessari ljóðabók. Hann gantast með það og segir að einn vinur hans hafi sagt að næst þyrfti hann að gefa út skýringarit fyrir bókina. Eitt ljóðanna fjallar um reiðina og hljóðar svona: Reiðin ber enga virðingu fyrir tímasetningum. „Mér finnst þetta vera dæmigert fyrir reiðina, hún ber enga virðingu fyrir kringumstæðum eða tímasetningum. Hún bara

leitaði hjálpar í bæninni, ef guð væri til, sem ég efaðist um. Svo leiddi þetta eitt af öðru. En ég gæti skrifað langa bók um þetta.“ Ef þú ferð 40 ár aftur í tímann þegar þú varst peyi í Baugholtinu í Keflavík. Hvernig finnst þér nútíminn vera í dag miðað við þá? Upplifun krakka þá og nú? „Ég held að það séu margir krakkar í dag að upplifa mikla hamingju sem börn en það er allt annar taktur í þessu. Ég myndi oft vilja skipta á minni barnæsku þá og við þau núna en ég er ekki viss um að þau væru til í það. Held að það meti hver sinn tíma á sinn hátt. Fyrir stuttu fór ég á pönk tónleika hér í bænum og þar hittumst við nokkrir gamlir Keflvíkingar, hefði manni dottið í hug að það passaði við fimmtugt fólk á sínum tíma? Ég á mjög góðar minningar úr æskunni í Keflavík. Ég minnist þess að eldri strákar en ég voru aldrei með neina stæla við þá sem voru yngri og ég hugsa oft til þess. Ég man eftir Valda, Sigga Garðars og Skarpa Njáls sem bjuggu í götunni. Fínir peyjar. Það var kannski stríð á milli hverfa en það var góður andi í hverfinu.“

Þurfum að eiga tíma til að gleðjast á jólum

springur eins og flugeldar innanhús eða eitthvað,“ og Gummi verður íbygginn þegar hann er spurður um persónulega reynslu af reiði. „Ég var einu sinni alveg rosalega reiður út í einn ákveðinn mann. Það bara algjörlega sauð á mér. Ég ákvað að leita í bænina með það og bað guð að taka burt af mér reiðina. Ég var svo hissa sjálfur að allt í einu varð ég ekki lengur reiður. Það var raunverulegt og rosalega skrýtið. Mér finnst best að gangast við reiðinni og tala um það, upphátt og af hverju. Það er oft bara ótrúlega mikil hreinsun í því að tala út áður en að maður sprengir framan í einhvern. Það kemur oft miklu meiri skynsemi út úr því.“

Það hafa margir sungið um hana Rut í sunnudagaskólanum og henni bregður fyrir í bókinni. Hún hafði gifst erlendum manni og í Gamla testamentinu er sorgleg saga Rutar rakin. Guðmundur tengir þetta allt við nútímann með flóttamennina sem streyma til Íslands í huga og skrifar ljóð um Rut og Naomi tengdamóður hennar. Rut og Naomi eru alsælar með félagslegu íbúðina. Sú gamla er dugleg að bjarga sér í nýju landi og fer alein í búðina meðan sú yngri skúrar skrifstofur. Guðmundur Karl Brynjarsson „Hvolf “.

Gummi hefur verið að lesa kafla úr bókinni á aðventunni en hann segir að það sé ekki beint skynsamlegt að vera í jólabókaútgáfu þar sem desember sé mikill annatími hjá prestum. Ekki sé þó ólíklegt að það fæðist önnur bók innar tíðar því þetta hafi verið mjög skemmtilegt. „En það sem kom mér á óvart þegar ég fékk bókina í hendur úr prentsmiðjunni, er hvað mér fannst ég berskjaldaður. Þetta var bara ég. Svolítið skrýtin tilfinning,“ segir presturinn og rithöfundurinn og svarar því aðspurður um jólahaldið að honum þyki mjög vænt um jólin. „Við þurfum að eiga tíma til að gleðjast og leyfa okkur. Þó að öllum takist ekki að gera það þýðir það ekki að allir hinir þurfi að lifa í sektarkennd yfir því. Jólin vekja alltaf upp hlýjar tilfinningar, en ég þekki samt marga sem upplifa þau alls ekki þannig, en það er þá eitthvað sem þarf að ræða og takast á.“


fimmtudagur 15. desember 2016

51

VÍKURFRÉTTIR

STÓRHUGA Í BÓKAÚTGÁFU ●●Keflvíkingar tilnefndir til bókmenntaverðlauna

Keflvíkingarnir Svavar Steinarr Guðmundsson og Þorsteinn Surmeli reka ásamt öðrum bókaútgáfuna Lesstofuna sem gaf út í haust bókina Jón lærði og náttúrur náttúrunnar eftir Viðar Hreinsson. „Bókin hefur fengið glimrandi viðtökur,“ segir Þorsteinn en hún var nýverið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis. „Egill Helgason sagði til að mynda að verkið væri ein af stórtíðindum þessarar bókavertíðar og Þorgeir Tryggvason skrifar í ritdómi að um sé að ræða ævisögu ársins.“ „Þetta er stórmerkilegt verk og í rauninni afrakstur fimm ára markvissrar rannsóknarvinnu og skrifa,“ segir Svavar og bætir við að Viðar hafi verið með Jón á heilanum í um þrjátíu

ár. Um er að ræða ævisögu Jóns lærða Guðmundssonar (1574–1658), en hann var sannkallaður þúsundþjalasmiður; skáld, fræðimaður, læknir, náttúrufræðingur, listaskrifari, bóndi, sjómaður, málari, tannsmiður, sjálflærður andófsmaður og fyrstur til að skrifa rit á íslensku um náttúru Íslands. Svavar segir að í bókinni sé lífshlaup Jóns rakið ítarlega, „en hann hraktist meðal annars um allt land fyrir afhjúpandi skrif sín um Baskavígin, sannkallaðan smánarblett á sögu Íslands. Hann var einnig dæmdur fyrir

að hafa rekið galdraskóla og ferðaðist hann til Kaupmannahafnar til að fá þeim útlegðardómi hnekkt en hafði ekki erindi sem erfiði.“ Áður en Jón fór utan kom hann meðal annars við á Suðurnesjum og dvaldi í einhvern tíma í Hvalsnesi, um áratug áður en Hallgrímur Pétursson fékk prestakallið þar. „Það eru ekki margar heimildir um ferðir hans en hann var

Elskulegur eiginmaður minn,

Pétur Þórðarson

er látinn. Jarðarförin hefur farið fram. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hlévangs sem annaðist hann síðustu æviárin. Erna Sigurbergsdóttir.

16 20 16 20 16 20 16 20

ta rétta urfrét Víkurf urVík eikur ðaleik fmiðal Skafmi rétta urfesju Ska m Víkurf ur urn eik ðal Suð áSuð fmi aur rétta m Ska slan esju ver Vík urn og eik á a ðal m fmi slan Ska esju og ver og verslana á Suðurnesjum og verslana á Suðurn

eitthvað hér, í Grindavík og á Bessastöðum áður en hann var dæmdur í útlegð,“ bætir Svavar við. Þorsteinn segir Viðar einnig leitast við að varpa ljósi á heimsmynd og hugmyndasögu 17. aldar, „en með því að lýsa náttúrusýn 17. aldar manna minnir Viðar á þá náttúruvá sem steðjar að okkur nú á dögum. Við verðum sífellt að minna okkur á að

við erum ekki þau einu sem höfum gengið þessa jörð, og ekki þau síðustu heldur.“ „Þetta er jólabókin í ár!“ segja þeir félagar í kór áður en þeir halda út í niðdimman desember, klifjaðir bókum sem þeir hafa vart undan að dreifa í bókabúðir, þeirra á meðal Eymundsson í Reykjanesbæ.

NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA Jólalukkumiðum í Nettó því það verður dregið 21. og 24. des.

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,

Sigríður Björg Vilhelmsdóttir,

áður til heimilis að Smáratúni 7 Keflavík, lést miðvikudaginn 7. desember. Hún verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 16. desember kl. 13:00. Óla Björk Halldórsdóttir, Sigríður Björg Halldórsdóttir, Sævar Halldórsson, Þórunn María Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

Kristján Sigurpálsson, Susie Ström, Axel Jónsson,

Laus störf í leikskólum hjá Skólum ehf. Allir leikskólar Skóla ehf. starfa eftir Heilsustefnunni og leggja ríka áherslu á heilsueflingu, jákvæðan skólabrag og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Því leitum við að samstarfsfólki sem: • Er tilbúið til að tileinka sér starfsaðferðir leikskólans • Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum • Er tilbúið til að taka þátt í öflugri starfsþróun • Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig fram um að velja sér jákvæð viðhorf í dagsins önn.

Hefur þú áhuga á heilsueflandi skólastarfi?

Heilsuleikskólinn Háaleiti í Reykjanesbæ auglýsir eftir konum og körlum til starfa, með leikskólakennarahvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um! menntun, eða aðraVið sambærilega menntun. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærs sonar míns, bróður, mágs og frænda,

Eysteins Skarphéðinssonar

Heiðarhvammi 3, 230 Reykjanesbæ, Hjartans þakkir færum við starfsfólki D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir einstaka alúð og umhyggju. Anna Margrét Jónsdóttir, Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, Njáll Skarphéðinsson, Jón Valgeir Skarphéðinsson, Sigurður Skarphéðinsson, Rakel Valsdóttir. og frændsystkini.

Heilsuleikskólinn Háaleiti, Ásbrú í Reykjanesbæ

Heilsuleikskólinn Háaleiti er þriggja deilda leikskóli með u.þ.b. 70 börnum. Leikskólinn starfar eftir Heilsustefnunni og viðmiðum Heilsueflandi leikskóla og leggur ríka áherslu á heilsueflingu, jákvæðan skólabrag og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Skólinn fylgir sameiginlegum matseðli í takti við Næringarstefnu Skóla ehf. sem hlaut Auglýsir eftir:tilnefningu til Orðsporsins 2014 og Fjöreggs NMÍ 2015. Framundan eru ýmis spennandi tækifæri fyrir áhugasamt fólk í tengslum við þróunarverkefni o.fl. • Leikskólakennara og/eða uppeldismenntuðum starfsmanni í 100% stöðu

• Leikskólakennara og/eða uppeldismenntuðum starfsmanni í 50% stöðu

Við leitum eftir glöðu og lausnamiðuðu fólki sem býr yfir jákvæðni, sjálfstæði, metnaði og hæfni í mannlegum Heilsuleikskólinn Háaleiti er þriggja deilda leikskóli með um 60 börn. samskiptum.

Anna Andrésdóttir, Linda Hrönn Birgisdóttir, Jón Oddur Guðmundsson

Auglýsingasíminn er

421 0001

Nánari upplýsingar veitir:

Nánari upplýsingar veitir Þóra Hjaltadóttir skólastjóri, á haaleiti@skolar.is og/eða í síma 617-8993 á skólatíma. ÞóraSigrún Sigrún Hjaltadóttir leikskólastjóri, sími 426-5276 Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á www.skolar.is/Starf

Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á http://www.leikskolinn.is/haaleiti/ undir „Um leikskólann“. Heilsuleikskólar Skóla ehf. eru: Hamravellir í Hafnarfirði, Háaleiti á Ásbrú í Reykjanesbæ, Heilsuleikskólar Skóla eru:Ársól í Reykjavík. Kór í Kópavogi, Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn

Hamravellir í Hafnarfirði, Háaleiti á Ásbrú í Reykjanesbæ, Kór í Kópavogi, Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík.


52

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

LAUTARFERÐ UPPI Á JÖKLI ●●Bjarki Þór Valdimarsson segir mikið frelsi fólgið í því að geta lent hvar sem er á þyrlu

Bjarki Þór Valdimarsson er 23 ára keflvískur flugþjónn með atvinnuþyrluflugmannsréttindi. Draumur Bjarka frá barnsárum er að starfa sem þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslu Íslands en hann fór til Svíþjóðar fyrir tveimur árum og lærði atvinnuflug á þyrlu. Námið er krefjandi og dýrt en aftur á móti er það frekar stutt, skemmtilegt og inniheldur án efa flottasta skólastofuútsýni sem hugsast getur.

Hildur Björk Pálsdóttir hildur@vf.is

Frá því hann man eftir sér hefur hann ætlað sér að verða þyrluflugmaður. „Líklegast kviknaði þyrluáhuginn með því að sjá þyrlur Landhelgisgæslunnar reglulega á flugi sem barn.“ Samhliða stúdentsnáminu í Fjölbrautaskóla Suðurnesja tók Bjarki einkaflugmannsréttindi á flugvélar hjá Keili. Hann segir það hafa verið góða reynslu til að taka með sér í þyrlunámið. „Þrátt fyrir að hafa verið svona handviss um hvað ég ætlaði að verða þá langaði mig að prófa hvort flug væri 200% fyrir mig. Og einnig gat ég hreinlega ekki beðið eftir að byrja fljúga svo ég skráði mig í einkaflugið á flugvél. Þyrlunám er ekki kennt á Íslandi svo það var ekki í stöðunni að fá að læra á þyrlu strax,“ segir Bjarki. Aðspurður hver helsti munurinn sé á flugnámi flugvéla og þyrla segir hann að flugvélar vilji fljúga en þyrlur vilja helst ekkert með flug hafa. Þar er átt við að flugvélar hafa vængi og eru eðlisfræðilega hannaðar til að fljúga og svífa en þyrlur aftur á móti eru vængjalausar og hafa ekki mikið svifgildi séu þær án afls frá mótor. „Þetta er mikið til það sama í bóklega náminu en flugeðlisfræðin er það sem er ólíkast.“ Bjarki fór svo til Gautaborgar í skóla sem heitir Northern Helicopters í samtvinnað atvinnuflugnám á þyrlu en samtvinnað þýðir að námið er sett upp sem atvinnuflugnám frá byrjun en ekki einkaflug fyrst. „Mér fannst ég fá meira út úr verklegu kennslunni fyrir vikið því markmiðið hjá kennurunum var að gera mann tilbúinn fyrir verklega prófið sem fyrst og eins taka fyrir mikilvæga hluti sem munu nýtast þegar ég hef störf sem flugmaður.“ Skólinn fluttist svo til Hróarskeldu í Danmörku og segir Bjarki það hafa verið góða reynslu að prófa að fljúga

í báðum löndum. „Flugreglurnar í Danmörku eru töluvert strangari en þær sænsku á þann veg að ekki má lenda hvar sem er eins og í Svíþjóð heldur þarf að sækja um sérstakt leyfi hjá Flugmálastjórn.“ Samtvinnaða námið tekur tólf til átján mánuði en það er hægt að taka það á styttri tíma ef maður er virkilega duglegur. Ég viðurkenni að það var erfitt að hanga inni og lesa yfir sumarmánuðina þar sem það voru 25 gráður og heiðskírt nánast í fjóra mánuði. Þetta er stutt nám en virkilega mikið efni svo þetta er mikil keyrsla. Aðspurður hvort þyrlunám sé mikið dýrara en flugnám segir Bjarki að munurinn sé töluverður, samtvinnað atvinnuflugnám á flugvélar kosti um 9 milljónir en á þyrlu um 17 milljónir. Er erfitt að fá starf sem þyrluflugmaður á Íslandi? „Já og nei, málið er það að þegar maður er nýútskrifaður úr náminu með fáa tíma verður alltaf mjög erfitt að komast í fyrstu vinnuna og þess vegna mjög mikilvægt að reyna að skapa sér tengsl innan geirans því þetta er mjög lítill heimur. Þetta er líklega besti tíminn til að læra því tækifærin fara ört vaxandi hér heima fyrir nýmenntaða þyrluflugmenn með þeim ferðamannastraumi sem nú er á Íslandi.“ Draumur Bjarka er að komast inn hjá Landhelgisgæslunni en hann er einnig opinn fyrir því að vinna úti í heimi. „Ég væri rosalega til í að geta byrjað ferilinn hér heima en annars eru Noregur og Grænland þeir staðir sem ég myndi vilja prófa,“ segir Bjarki. Hvernig var að læra í Svíþjóð? Að læra í Svíþjóð fannst mér virkilega fínt. Svíar eru mjög opnir og auðvelt að kynnast þeim. Skólinn sem ég var í kennir námið á ensku svo það voru strákar og stelpur alls staðar að úr heiminum komin í skólann til að læra. Skólinn var á gömlum herflugvelli í 15 mínútna fjarlægð frá Gautaborg og

ég bjó á heimavist skólans sem var við völlinn. Það var ódýrt og hentugt að vera nálægt skólanum og kynntist ég öllum mínum vinum á heimavistinni sem marga hverja ég er í sambandi við vikulega í dag. Aðspurður hvort hann hafi alltaf haft áhuga á þyrlum svarar Bjarki játandi. „Allt mitt líf hef ég verið með þessa bakteríu í mér. Ég held að margir Suðurnesjamenn séu með flug bakteríuna í sér enda lítið annað hægt þegar maður horfir á eftir flugvélum lenda og taka á loft alla daga, allan ársins hring. Það skemmtilegasta númer 1, 2 og 3 er frelsið sem þyrlan bíður upp á. Ef mann langar að borða nesti uppi á jökli þá lendir maður bara uppi á jökli, ekkert mál svo lengi sem veður leyfir. Þú ert ekki háður flugvöllum og útsýnið úr þyrlu er á allt öðrum „standard“ en í flugvél þar sem þú ert ekki með hreyfil í sjónlínunni og gólfið fram í er í flestum tilvikum mjög gegnsætt. Einnig er það fjölbreytileikinn sem þyrlurnar þjóna sem gerir þetta að mjög spennandi starfi, til dæmis kvikmyndaverkefni, „heli skiing,“ útsýnisflug, „sling“ verkefni þar sem verið er að hífa þunga hluti með þyrlunum og margt fleira.

Stoppað til að teygja úr sér á heitum sumardegi.

Hver er skemmtilegasti staðurinn sem þú hefur lent á? Í Svíþjóð er rosalegt magn af eyjum og margar hverjar eru virkilega flottar með villtum dýrum svo að í aðfluginu sér maður alls kyns dýr á hlaupum, mjög skemmtilegt. En minn skemmtilegasti staður var þegar ég og einn vinur minn tókum þyrlu og pöntuðum borð á fínum stað á eyju fyrir utan Gautaborg og lentum síðan við hliðina á staðnum, borðuðum og flugum svo heim. Aðflugið krafðist ákveðinnar vindáttar til að geta lent og svo voru ljósastaurar allt í kringum litla lendingarflötinn svo þetta var erfitt en klárlega þess virði. Haukur og Bjarki eftir fyrsta þyrluflug Bjarka þar sem hann fékk að prófa að fljúga.

„Ég held að margir Suðurnesjamenn séu með flug bakteríuna í sér“ Sólóflug á flottum sumardegi með enga vinstri hurð á þyrlunni. Fegurð eyjanna á vesturströndinni leynir sér ekki.


fimmtudagur 15. desember 2016

53

VÍKURFRÉTTIR

Gleðilega hátíð og verðum í stuði á nýju ári

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í desember Við lengjum opnunartímann í desember. Fjöldi glæsilegra tilboða og kaupauka. Hlökkum til að sjá ykkur. Apótekarinn Keflavík

Apótekarinn Fitjum

Laugardagurinn 17. desember kl. 10–18

Annar í jólum, 26. desember kl. 10–14

Þorláksmessa 23. desember kl.10.30–19

Gamlársdagur 31. desember kl. 10–12

Sunnudagurinn 18. desember kl. 10–18

27. desember kl. 10–19

Aðfangadagur 24. desember kl.10–12

Nýársdagur 1. janúar LOKAÐ

Þorláksmessa 23. desember kl. 9–23

Gamlársdagur 31. desember kl. 10–12

Jóladagur 25. desember LOKAÐ

Aðfangadagur 24. desember kl.10–12

Nýársdagur 1. janúar LOKAÐ

Annar í jólum 26. desember LOKAÐ

Jóladagur 25. desember LOKAÐ

2. janúar 2017 kl. 10–19

Apótekarinn Keflavík Suðurgötu 2 S: 421 3200

Apótekarinn Fitjum Fitjum 2 S: 534 3010

- lægra verð


54

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

VERÐA

NORÐURLJÓS

Í KVÖLD? Sigrún Ýr Hjörleifsdóttir starfar í samfélagsmiðladeild Icelandair

Hildur Björk Pálsdóttir hildur@vf.is

„Við fáum alls kyns fyrirspurnir til okkar í gegnum samfélagsmiðla, allt frá því að breyta bókunum yfir í hvenær norðurljósin sjást á Íslandi. Farþegarnir okkar eru líka virkir í að skrifa skemmtilegar athugasemdir við það markaðsefni sem Icelandair birtir,“ segir Sigrún Ýr Hjörleifsdóttir, en hún starfar í samfélagsmiðladeild Icelandair, sem var stofnuð fyrr á þessu ári. Markaðs- og auglýsingaaðferðir hafa tekið miklum breytingum á undanförnum árum og hafa mörg fyrirtæki stofnað sérstakar samfélagsmiðladeildir. Þar starfar fólk við það að birta efni og upplýsingar og svara fyrirspurnum fyrir hönd fyrirtækis síns á samfélagsmiðlum eins og Facebook, Twitter og Snapchat. Fyrsta samfélagsmiðladeildin hjá íslensku fyrirtæki var stofnuð árið 2011 og hefur þeim farið ört fjölgandi, enda kröfur viðskiptavinanna að breytast og einnig vettvangur markaðssetningar, þá sérstaklega sem beint er að ungu fólki. Sigrún Ýr er menntaður almannatengill, en hún lauk BSc prófi í „Mass Communications,“ sem þýða mætti sem boðskipta- og fjölmiðlafræði, og útskrifaðist hún af almannatengslabraut frá Florida International University í Miami. „Sem menntaður almannatengill nýtist námið mér vel að því leyti að ég lærði vel inn á alla samfélagsmiðla, hvaða áhrif þeir geta haft.

Ég svara fyrir hönd fyrirtækisins um leið og ég passa upp á ímynd þess. Ég starfaði einnig sem umsjónarmaður í farþegaafgreiðslu Icelandair hjá IGS og fyrri reynsla á flugvellinum kemur sér mjög vel í þessu starfi,“ segir Sigrún Ýr. Aðspurð um helstu verkefni starfsmanna samfélagsmiðladeildarinnar segir hún þau vera að fylgjast með öllum samfélagsmiðlum Icelandair, sem eru Facebook, Twitter, Instagram, YouTube og LinkedIn og svara fyrirspurnum sem berast þeim frá öllum heimshornum. „Einnig fylgjum við eftir því markaðsefni sem Icelandair sendir frá sér á samfélagsmiðlum samhliða því að vaka yfir ímynd vörumerkisins. Við erum átta manns í deildinni, en hún tilheyrir Service Center Icelandair sem er undir Söluog markaðsviði og vinnum við í nánu samstarfi við flest öll svið fyrirtækisins.“ Farþegar Icelandair leita mjög mikið til fyrirtækisins í gegnum samfélagsmiðla og fer sá hópur ört stækkandi að sögn Sigrúnar. „Flestir eru beintengdir við þessa miðla á snjallsímum sínum og því auðvelt að hafa samband við okkur í gegnum þá. Icelandair er til staðar þar allan sólarhringinn að þjónusta viðskiptavini sína.“ Spurð út í kröfur viðskiptavina um svartíma segir Sigrún Ýr að öllu jöfnu sé svartími Icelandair innan þrjátíu mínútna. „Einstök flóknari tilfelli taka lengri tíma, þegar leita þarf til annarra deilda fyrirtækisins. En með góðu samstarfi milli deilda náum við að þjónusta farþegann eins og best verður á kosið.“

Sigrún Ýr starfaði áður sem umsjónarmaður í Farþegaafgreiðslu IGS á Keflavíkurflugvelli og segir reynsluna þaðan nýtast vel í starfi sínu hjá Icelandair.

„Flestir eru beintengdir við þessa miðla á snjallsímum sínum“ Sigrún Ýr á útskriftardaginn sinn í Miami í Bandaríkjunum.


fimmtudagur 15. desember 2016

55

VÍKURFRÉTTIR

Heiðarhverfi er næsta hverfi við verksmiðju United Silicon í Helguvík. Íbúar höfðu fundið fyrir lyktar- og reykmengun. Þar hefur nú verið settur upp mengunarmælir. VF-mynd/dagnyhulda

Mælir í Heiðarhverfi kominn í gagnið ■■Umhverfisstofnun setti upp mælistöð í Heiðarhverfi á dögunum, þar sem mælt er magn brennisteinsdíoxíðs, brennisteinsvetnis og kolmónoxíðs í andrúmsloftinu. Íbúar í hverfinu höfðu fundið fyrir lyktarmengun frá kísilveri United Silicon. Mælirinn var tekinn í gagnið í síðustu viku og er hægt að fylgjast með mælingum á síðu Umhverfisstofnunar, www.loftgaedi.is. Þar er einnig hlekkur á mæla við Leiru, Hólmbergsbraut og Mánagrund.

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

Verið velkomin

á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00

Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

s. 421 2045

HANDUNNIN LEÐURBELTI, SVÖRT OG BRÚN. MANNBRODDAR, AXLABÖND, BINDI OG SLAUFUR

Landamæravörður

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum óskar eftir starfsfólki í störf landamæravarða í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Helstu verkefni og ábyrgð: Starfsskyldur landamæravarða er að sinna fyrsta stigs landamæraeftirliti í vegabréfahliðum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli þar sem þeir starfa við hlið lögreglumanna og undir þeirra stjórn. Hlutverk landamæravarða er að skoða farþega með tilliti til ítarlegs eða lágmarks eftirlits eins og það er skilgreint samkvæmt reglugerð um för yfir landamæri, nr. 1212/2007. Hæfnikröfur: Vera íslenskur ríkisborgari og hafa náð 20 ára aldri; Ekki hafa gerst brotlegur við refsilög. Ef brot á refsilögum er smávægilegt eða langt um liðið frá því að það var framið er það háð mati lögreglustjóra hvort undanþága verði veitt; Standast bakgrunnskoðun flugverndar með jákvæðri umsögn; Vera andlega og líkamlega heilbrigður og standast læknisskoðun; Hafa lokið a.m.k. tveggja ára framhaldsmenntun eða annarri menntun sem nýtist í starfi; Hafa gott vald á íslensku og ensku. Önnur tungumálakunnátta er kostur. Lögð er áhersla á skipuleg og vönduð vinnubrögð, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum. Frekari upplýsingar um starfið: Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármálaráðherra og SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu hafa gert. Um er að ræða vaktavinnu og er starfshlutfall breytilegt, frá 50% upp í 100%. Ráðið verður frá 15. febrúar 2017.

SJÁÐU OKKUR Á FACEBOOK

Nánar er kveðið á um hlutverk landamæravarða í reglugerð um för yfir landamæri og í starfslýsingu sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum gerir fyrir hvern landamæravörð. Áhugasamir sem áður hafa sótt um eru vinsamlegast beðnir að ítreka umsókn sína. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið með því að fara inná www.starfatorg.is og fylla út starfsumsókn þar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Starfshlutfall er 50 - 100% Umsóknarfrestur er til og með 6. janúar 2017.

MEISTARAFLOKKUR KARLA

KEFLAVÍK - ÍR

Nánari upplýsingar veitir: Sigurgeir Ómar Sigmundsson - sos@logreglan.is - 4442200. Jón Pétur Jónsson - jon@logreglan.is - 4442200.

TM-HÖLLIN FIMMTUDAGINN 15. DESEMBER KL. 19:15

GLÓÐSTEIKTIR

FÍTON / SÍA

HAMBORGARAR FYRIR LEIK

einföld reiknivél á ebox.is

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

201 66 201 201 66 201

ta rfrétta Víkurfrét kurVíku iðaleikur Skafmiðalei ta rfrétta Skafm um Víkurfrét kur rnesj Suðu iðalei ana Skafm um versl Víku rnesj ogversl kur ááSuðu iðalei ana Skafm rnesjum og og verslana á Suðurnesjum og verslana á Suðu

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA Jólalukku miðum í Nettó því það verður dregið 21. og 24. des.


Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001

Mundi

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

facebook.com/vikurfrettirehf

Gáfu 12.000 máltíðir af skólamat á ári til 5 ára ■Icelandair ■ C argo, Skólamatur og Skötumessan afhentu í morgun Velferðarsjóði Suðurnesja 12.000 máltíðir af skólamat á ári til næstu fimm ára. Velferðarsjóðurinn mun sjá um að úthluta máltíðunum.

twitter.com/vikurfrettir

instagram.com/vikurfrettir

ÞAÐ ERU ALLIR PARTUR AF OMNIS FJÖLSKYLDUNNI

Frítt í sund í Sandgerði

HAFÐU ÞAÐ GOTT UM JÓLIN

■■- Námsgögn grunnskólanemendum áfram að kostnaðarlausu. Frítt verður í sund fyrir Sandgerðinga og sömuleiðis útlán úr bókasafni bæjarins. Þetta er meðal nýjunga í fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar fyrir tímabilið 2017 til 2020 sem samþykkt hefur verið. Í fundargerð bæjarstjórnar segir að ríkt hafi góð samstaða innan hennar við vinnslu fjárhagsáætlunarinnar og að hún beri þess merki að mikil áhersla hafi verið lögð á að stuðla að fjölskylduvænu samfélagi. Námsgögn verða foreldrum nemenda grunnskólans áfram að kostnaðarlausu og fráveitugjald, sem er hluti af fasteignagjöldum, verður lækkað um 16 prósent.

Ipad Air 2i

Áminntir vegna flugeldaskota ■■Lögreglunni á Suðurnesjum barst sl. föstudagskvöld tilkynning um að verið væri að skjóta upp flugeldum í Keflavík. Það stóð heima þegar mætt var á vettvang. Þeim sem að flugeldaskotunum stóðu var bent á að þetta væri ekki leyfilegt á þessum árstíma og var þeim veitt áminning, enda um brot á lögum að ræða. Urðu þeir mjög skömmustulegir og lofuðu að þetta kæmi ekki fyrir aftur. Lögregla bendir á að almenn notkun á skoteldum til er óheimil nema á tímabilinu 28. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum.

Nesfiskur kaupir Ný-Fisk ■■Samið hefur verið um kaup Nesfisks í Garði á Ný-Fiski í Sandgerði, dótturfélagi Icelandic Group. Vörumerkið „Icelandic Seafood“ fylgdi ekki með í kaupunum. Ný-Fiskur hefur sérhæft sig í sölu á ferskum sjávarafurðum. Stór hluti framleiðslunnar er fluttur til viðskiptavina í Belgíu og víðar í Evrópu. Ný-Fiskur rekur vinnslu í Sandgerði og gerir út línubátinn Von GK-113 í gegnum dótturfélag sitt, Útgerðarfélag Sandgerðis. Um 70 manns starfa hjá fyrirtækinu. Nesfiskur ehf. rekur frystingu, ferskfiskvinnslu, saltfiskverkun, skreiðaog hausaþurrkun í Garði. Þá er fyrirtækið með einn frystitogara, tvo ísfisktogara, fjóra snurvoðarbáta og tvo línubáta. Í Sandgerði er fyrirtækið með frystingu og ferskfiskvinnslu.

Auglýsingasíminn er

421 0001

Sandgerðingar fá örugglega sundmaga eftir allar ókeypis sundferðirnar...

32GB WiF

66.990,-

Lenovo

Samsungá

fr snjalltæki ,0 0 29.9

”

IT Tab 3-7

14.990,-

Lenovo

”

,1 Yoga 310

10”

a spjaldtölv

39.990,-

Fartölvur frá aðeins

49.900,-

Blutooth hátalarar

HAFNARGATA 40 - S. 422 2200

Úrvalið af tölvu og fylgihlutum eru í Omnis

REYKJANESBÆ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook