Skip to main content

50 tbl 2016 fyrri hluti

Page 1

• fimmtudagurinn 22. desember 2016 • 50. tölublað • 37. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

Gleðilega hátíð!

Körfuboltastelpurnar í Keflavík bls. 68

S N O T N E R B A Amma hringir SAG boltakappa körfu

á hverjum degi frá Póllandi bls. 16

bls. 62-63

bls. 64-65

r u ð a t s n n i Eng n i g r ö j B g o s n i e

Sjálfboðastarf Súsönnu í Suður-Afríku

bls. 18-20

ð i k l ó f a g Un úðinni í Rauða kross b

bls. 24


2

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

Sjá fram á bjartari tíma ●●Reykjanesbær hefur náð samkomulagi við kröfuhafa ●●Skilmálar samkomulags Reykjanesbæjar við hluta kröfuhafa liggja nú fyrir

frá bý

kaf fitá r í bolla býli frá

kaffitár frá bý li í b

oll

áR fit

la bol

hátíð í bæ

a

kaffitá r

í li

a í boll ýli áb fr

r frá býli í bolla fitá kaf

ka f

Reykjanesbær semur við kröfuhafa Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar til fjögurra ára, 2017 til 2020, var afgreidd að lokinni síðari umræðu á bæjarstjórnarfundi og samþykkt samhljóða síðasta þriðjudag. Undanfarin misseri hefur verið unnið að endurskipulagningu fjármála Reykjanesbæjar og hefur sveitarfélagið meðal annars átt í viðræðum við helstu kröfuhafa sína með það að markmiði að endurskipuleggja efnahagsreikning samstæðu A og B hluta sveitarfélagsins. Viðræður hafa nú skilað árangri og liggja fyrir skilmálar samkomulags við lánveitendur Eignarhaldsfélagsins Fasteignar, sem nú er alfarið í eigu Reykjanesbæjar, en viðræðum við kröfuhafa Reykjaneshafnar er ólokið. Má segja að með þessu sé Reykjanesbær að rétta úr kútnum og bæjaryfirvöld horfi fram á bjartari tíma þó að áfram verði nauðsynlegt að gæta aðhalds í rekstri og útgjöldum, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ. Skilmálar samkomulags við kröfuhafa Fasteignar gerir ráð fyrir skuldbreytingum, skilmálabreytingum og sölu eigna. Ekki er gert ráð fyrir afskriftum eða niðurfellingum skulda. Með samkomulaginu er greint á milli eigna sem nýttar eru til lögbundinnar grunnþjónustu sveitarfélagsins og annarra eigna, en dregið er verulega úr

leiguskuldbindingum sveitarfélagsins vegna þeirra eigna. Samkomulagið er háð endanlegri undirritun aðila sem og skilyrðum af beggja hálfu. Unnið verður að því á næstunni að útfæra og uppfylla þau ásamt því að ljúka viðræðum við aðra hagsmunaaðila og kröfuhafa sveitarfélagsins og samstæðu þess. Einnig er sveitarfélaginu gert kleift að huga að uppbyggingu nauðsynlegra innviða svo sem nýs grunnskóla í Dalshverfi og fjölgun leikskólaplássa. Samhliða þessu er ætlunin að færa Fasteignir Reykjanesbæjar, sem heldur meðal annars utan um félagslegt húsnæði, yfir í húsnæðis-sjálfseignarstofnun eins og heimild er fyrir í nýjum lögum um almennar íbúðir og mun það létta talsvert á skuldabyrði sveitarfélagsins. Þessar aðgerðir, ásamt ýmsum öðrum, munu gera Reykjanesbæ kleift að uppfylla fjárhagsleg skilyrði sveitarstjórnarlaga og miðað við núverandi forsendur er ekki lengur þörf á að sveitarfélagið óski eftir skipun sérstakrar fjárhaldsstjórnar á vegum innanríkisráðuneytisins eins og útlit var fyrir um tíma. Áfram verður þó þörf á ströngu aðhaldi í fjármálum sveitarfélagsins.

Reykjanesbær og kröfuhafar Eignarhaldfélagsins Fasteignar hafa náð niðurstöðu um skilmála samkomulags, sem unnið verður í að útfæra nánar á næstu vikum og mánuðum og sjá bæjaryfirvöld því fram á bjartari tíma þó að áfram verði nauðsynlegt að gæta aðhalds í rekstri. Viðræðum við kröfuhafa Reykjaneshafnar er ekki lokið og verður haldið áfram á nýju ári. Eignarhaldsfélagið Fasteign er nú alfarið í eigu Reykjanesbæjar og kveða samningar við kröfuhafa þess á um skuldbreytingar, skilmálabreytingar og sölu eigna. Ekki er gert ráð fyrir afskriftum eða niðurfellingum skulda. „Við höfum náð mikilvægum áfanga en þessu er ekki lokið. Við þurfum áfram að velta fyrir okkur hverri krónu,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Ný sveitastjórnarlög tóku gildi hér á landi árið 2012 og kveða á um að árið 2022 beri sveitarfélögum að skulda minna en 150 prósent af árlegum tekjum. Ljóst var að róðurinn yrði erfiður fyrir nokkur sveitarfélög og hvað erfiðastur fyrir Reykjanesbæ. Kjartan segir að ljóst hafi verið að Reykjanesbær myndi ekki ná skuldaviðmiðinu nema semja að nýju við kröfuhafa sína. „Fyrst þegar við hófum viðræður við kröfuhafa fyrir tveimur árum var staðan önnur og verri en nú. Þá sáum við ekki fram á annað en að við þyrftum afskriftir skulda.“ Með uppsveiflu undanfarinna missera hefur ástandið batnað og aðilar frekar einbeitt sér að því að ná fram breytingum á skilmálum og tilfæringum á greiðslum. Nú er samkomulag í höfn sem Kjartan segir hjálpa bæjaryfirvöldum í þá átt.

Fasteign skipt í tvö félög

Þátttaka í Fasteign ehf. hefur verið umdeild en í henni fólst að eignarhaldsfélagið keypti fasteignir sveitarfélaga, sá um rekstur þeirra og sveitarfélögin leigðu þær af því undir starfsemi sína. Kjartan Már var bæjarfulltrúi á þeim tíma þegar kerfið var innleitt í Reykjanesbæ og var það samþykkt í bæjarstjórn með tíu atkvæðum af ellefu. Einn bæjarfulltrúi sat hjá en það var Kjartan. Hann kveðst enn þann dag í dag vera ánægður með þá ákvörðun sína. „Hefði ég samþykkt þetta á sínum tíma væri erfitt fyrir mig að vinna gegn fyrirkomulaginu. Ég skil vel að menn hafi viljað prófa

dæmis í tengslum við uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli.“

Hækka hvatagreiðslur til barna

nýjar leiðir. Eftir á er auðvelt að sjá að það var rangt að hafa helming fjármögnunar í erlendum lánum. Nú er búið að endurskipuleggja félagið sem samanstóð af mörgum eigendum, sveitarfélögum, bönkum, traustum og góðum stofnunum á sínum tíma.“ Reykjanesbær er eina bæjarfélagið sem eftir er í Fasteign og því er fasteignafélagið aðeins utan um eignir Reykjanesbæjar sem hefur tekið það inn í rekstur sinn. Kröfuhafar félagsins voru meðal þeirra sem bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ náðu samningum við í vikunni. Reykjanesbær er með langa leigusamninga við félagið. Upphæð skuldarinnar er um 14 milljarðar. Höfuðstóll lánanna hefur ekki verið lækkaður en vextir verða endurskoðaðir. Ákveðið hefur verið að skipta Fasteign í tvö félög, annars vegar um þær eignir sem hýsa lögboðna starfsemi og sveitarfélagið getur ekki verið án, eins og grunnskóla og leikskóla. Annað félag verður stofnað um aðrar eignir sem Reykjanesbær hefur leigt og eru ekki fyrir lögboðin verkefni. Að sögn Kjartans verða leigusamningar styttir og skuldbinding þar með. Þá er til skoðunar að selja hluta fasteignanna.

Beina nú orkunni í annað

Viðræður við kröfuhafa hafa staðið yfir í um tvö ár og hafa tekið mikinn tíma og orku bæjaryfirvalda og fulltrúa þeirra. Kjartan segir það ágætis tilbreytingu að þau verkefni séu frá. „Þetta er búinn að vera mjög lærdómsríkur tími og við erum öll reynslunni ríkari. Nú förum við að beina sjónum okkar að öðrum verkefnum eins og uppbyggingu í Reykjanesbæ og á Suðurnesjum öllum til að grípa þau tækifæri sem liggja í loftinu, til

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir tímabilið 2017 til 2020 var samþykkt samhljóða á bæjarstjórnarfundi síðasta miðvikudag. Þrátt fyrir áframhaldandi aðhald í rekstri verður markmiðið að bæjarfélagið bjóði íbúum áfram upp á góða þjónustu, að sögn Kjartans. „Það hefur verið okkar keppikefli. Til að mynda ætlum við að taka Borgarveginn í gegn og sinna áfram viðhaldi gatna og styðja við íþróttastarf, svo eitthvað sé nefnt.“ Lagt hefur verið til að hvatagreiðslur til tómstundastarfs barna verði hækkaðar úr 15.000 í 21.000 krónur á næsta ári. „Við ætlum að halda áfram á þessari braut svo að bæjarbúar geti unað sáttir við sitt þó að við séum á sama tíma í þröngu aðhaldi.“ Tekjur Reykjanesbæjar hafa aukist undanfarin misseri með fjölgun íbúa og betra atvinnuástandi. Kjartan segir mögulegt að nýta innviði þar sem tekjur vaxi en kostnaður ekki eins mikið. „Þegar við svo förum að byggja skóla verður kostnaður meiri en tekjur og þá kemur mínus sem jafnast út næstu ár á eftir.“ Nú er að nást jafnvægi í rekstri Reykjanesbæjar. Samkvæmt reglum ber sveitarfélögum að vera í plús á hverju þriggja ára tímabili og Reykjanesbær er að ná því í fyrsta sinn í langan tíma.

Þakklátur fyrir samstöðu

Kjartan tók við stöðu bæjarstjóra sumarið 2014 og hafa viðræður við kröfuhafa staðið yfir síðan þá. Hann kveðst ánægður með samstöðu bæjarfulltrúa á þeim erfiðu tímum sem senn eru að baki. „Í um 95 prósent mála hafa minni- og meirihluti verið sammála. Auðvitað hefur komið upp núningur og mál þar sem fólk er ekki sammála. Það hefur munað miklu að vera ekki að eyða púðri í innbyrðis átök. Ég vil líka nota tækifærið og þakka íbúum fyrir þeirra samstöðu.“ Vegna slæmrar fjárhagsstöðu hefur verið sérstakt álag á útsvar. Það verður fellt niður 1. janúar 2018 og fer þá úr 15,05 prósentum í 14,52 prósent líkt og tíðkast víða um land. Lengri útgáfu af viðtalinu við Kjartan Má, sem er jafnframt sjónvarpsviðtal, má sjá á vef Víkurfrétta, vf.is.

Sendum bæjarbúum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár


Gleðilega hátíð Aðventuljósin prýða ótal glugga á Íslandi og vekja jafnan athygli gesta því ljósin sjö minna á menóru, sem er eitt elsta trúartákn gyðinga.

En siðurinn barst ekki hingað frá Ísrael heldur frá Gautaborg þar sem maður að nafni Oscar Andersson föndraði með bilaðar ljósaperur fyrir jólin 1934.

Lestu um sögu aðventuljósanna á landsbankinn.is/jol.

Landsbankinn

landsbankinn.is

410 4000


Jólakjötið færðu í Nettó Hangiframpartur

2.294

22%

Hangilæri

úrbeinaður - Kjötsel KR KG

úrbeinað - Kjötsel

2.962 KRKG

Áður: 2.798 kr/kg

Áður: 3.798 kr/kg

Viltu hafa það hefðbundið um jólin...

Kalkúnn heill Frosinn - Allar stærðir

998

KR KG

40%

Hamborgarhryggur snyrtur og úrbeinaður - Kjötsel

1.739 KRKG

40%

Áður: 2.898 kr/kg

Bayonneskinka

Hangilæri

Kjötsel

með beini - Kjötsel

2.146

Rjúpubringur 400 gr.

1.998

Áður: 1.996 kr/kg

Áður: 2.384 kr/kg

KR pK

40% Humar

Humar

HS Skelbrot

án skeljar 800 gr. poki.

Askja - 2 kg.

9.998

1.198 KRKG

KR KG

KR pK

2.999

KR pK

Áður: 4.998 kr/pk

blandað - 1 kg

3.469

KR KG

Áður: 3.895 kr/kg

Tilboðin gilda 21 . – 24. desember 2016

Hamborgarhryggur KEA

1.798 KRKG

Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

Mjó


Dádýralundir frá Nýja Sjálandi

5.838

20%

20%

Kálfalundir frá Holland

3.998 KRKG

KR KG

Áður: 4.998 kr/kg

Áður: 7.298 kr/kg

...eða viltu hafa það framandi

20%

Hreindýralundir

7.910 KRKG

Nautalundir

Áður: 8.989 kr/kg

Danish Crown 1,2 - 1,5 kg.

3.438

20%

KR KG

Áður: 4.298 kr/kg

20% Dádýravöðvar

Kalkúnabringur

3.198 KRKG

KR KG

Áður: 3.998 kr/kg

Áður: 3.998 kr/kg

Áður: 2.498 kr/kg

Nautalundir frá Nyja-Sjálandi, 1,8 - 2,2 kg.

3.998

3.198 KRKG

Frosið

Erlendar

2.098

frá Nýja Sjálandi

Kengúru fille

KR KG

Nauta T-bone steik 1 stk.

3.993

KR KG

Áður: 4.698 kr/kg

www.netto.is

Nautamjaðmasteik Roastbeef 600 - 800 gr.

2.998 KRKG

Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hafnarfjörður · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss


6

VÍKURFRÉTTIR

JÓLAHUGVEKJA ERLU

STARFSSTÖÐ HRINGRÁSAR HELGUVÍK MUN LOKA UM ÁRAMÓT

Viðskiptavinir velkomnir í Klettagarða 9. Gleðilegt ár og þökkum viðskiptin á árinu.

LAUS STÖRF VELFERÐARSVIÐ Umönnun á heimili fatlaðra barna FRÆÐSLUSVIÐ Sálfræðingur í 50% starfshlutfall HOLTASKÓLI Staða kennara AKURSKÓLI Skólaliði AKURSKÓLI Kennari í íslensku og samfélagsfræði Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf eða beint á Ráðningavefinn https://reykjanesbaer.hcm.is/ storf/. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf.

fimmtudagur 22. desember 2016

Þ

Horft til himins

egar horft er upp í stjörnuhimininn sækir sú hugsun að okkur, hvort líf sé að finna einhvers staðar í þeim ómælisvíddum sem þar mæta augum okkar. Horfir ekki hvelfingin til baka á okkur eins og vera með þúsund augu? Er einhver þarna úti sem spyr sig sömu spurninga? Þrátt fyrir alla þekkingu okkar vitum við ekki enn hvort líf sé að finna víðar en á þessari plánetu – en spurningin lætur okkur ekki í friði og enn leitum við. Af hverju? Jú, vegna þess að þrátt fyrir stærðirnar, fjöldann, aflið og furðurnar sem blasa við augum okkar er ekkert eins merkilegt og lífið Á jólahátíðinni fyrstu fengu hirðarnir óvænta heimsókn – ef til vill úr fjarlægum kimum alheimsins eða jafnvel einhverjum öðrum víddum tilverunnar. Boðskapurinn sem gestirnir færðu hirðunum var sá að nýtt líf væri komið í heiminn: „Yður er í dag frelsari fæddur.“ Heimurinn varð aldrei samur, því lífið breytir öllu. Frelsari sá sem fæddist þessi fyrstu jól átti eftir að hafa mikil áhrif og fylgjendur hans halda heilög jól í minningu fæðingar hans. Jólin eru hátíð lífsins. Þau fjalla um dýrðina sem lífinu fylgir. Með þeim hætti birtist hinn almáttugi Guð sem lítið barn, eins og Einar í Heydölum lýsir þessum atburði: Fjármenn hrepptu fögnuð þann, þeir fundu bæði Guð og mann, í lágan stall var lagður hann, þó lausnarinn heimsins væri.

Sá sem þar kom í heiminn starfar enn og lifir enn. Hann er sá sem lét dauðann lúta í lægra haldi fyrir lífinu. Hann minnir okkur enn á undur lífsins og það hversu ríkar skyldur við berum gagnvart því. Sjálfur sagðist hann mæta okkur í okkar minnsta bróður – og einmitt þannig mætum við honum hvað eftir annað. Boðskapurinn er sá sami. Jafnvel þegar lífið er umkomulaust í smæð sinni og hverfulleik er það ríkulegri vottur um sköpun Guðs en stærstu furður alheimsins. Erla Guðmundsdóttir Sóknarprestur í Keflavíkurkirkju

Ég ætla að muna eftir ykkur á jólunum

Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.

VIÐBURÐIR OPNUNARTÍMI YFIR JÓL OG ÁRAMÓT Ráðhús -þjónustuver og bókasafn

Sundmiðstöð/Vatnaveröld

Lokað 24.-26. desember Opnar kl. 10:00 27. desember Lokað 31. desember-2. janúar Aðra daga er hefðbundinn opnunartími.

Opið 23. desember til kl. 16:00 Lokað 24.-26. desember Opið 31. desember til kl. 11:00 Lokað 1. janúar Aðra daga er hefðbundinn opnunartími.

Íþróttamiðstöð Njarðvíkur

Duus Safnahús og Rokksafn

Opið 23. desember til kl. 13:00 Lokað 24.-26. desember Lokað 31. desember og 1. janúar Aðra daga er hefðbundinn opnunartími.

Lokað 24. og 25. desember Lokað 31. desember og 1. janúar Aðra daga er hefðbundinn opnunartími. Gleðilega hátíð!

Þetta voru orð frú Ásu Olavsen þegar hún kvaddi börnin í Keflavík sem hún hafði boðið til veislu heim til sín, í fínasta hús bæjarins, Fischershús, einn fagran sumardag. Frú Ása var eiginkona Ólafs Olavsens forstjóra og meðeiganda Duusverslunar í kringum aldamótin 1900. Frú Ása stóð við sitt. Frá þessum tíma stóð Duusverslunin fyrir glæsilegum jólatrésskemmtunum í Bryggjuhúsinu um 20 ára skeið. Þarna komu saman öll börn bæjarins og úr nágrannabyggðum, allt upp undir 300 börn og sáu þá mörg þeirra jólatré í fyrsta sinn. Skemmtunin hófst

seinni partinn og stóð fram undir miðnætti. Dansað var í kringum jólatréð, söngvar sungnir og veitingar reiddar fram. Um miðnættið tók fullorðna fólkið við og skemmti sér fram eftir nóttu. Ljóst er að þessar skemmtanir hafa verið mikil upplyfting á þessum tímum þegar Keflavík var bara lítið, fátækt þorp og fátt um að vera. Kannski hafa þær haft svipað gildi og Ljósanótt fyrir okkur í dag. Í desember var litið til baka og þessi aldargamli viðburður rifjaður upp með jólatrésskemmtun í Bryggjuhúsinu. Þessi mynd var tekin þar á aðventunni.

Óskum bæjarbúum gleðilegra jóla með ósk um friðsæla jólahátíð og farsælt komandi ár Þökkum fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, sími 421 0002, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www. vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

Fálkavöllur 7 - 235 Keflavíkurflugvelli - Sími 420 0700 - www.airportassociates.


Njóttu líðandi stundar

timamot.is


8

VÍKURFRÉTTIR

TÖLVUSTÝRÐ LYFJASKÖMMTUN

Lionessur styrktu kaup á lestæki fyrir blindan nemanda

GERIÐ VERÐSAMANBURÐ Á SKÖMMTUNARGJÖLDUM

●●Mun skipta sköpum fyrir nám nemandans, að sögn sérkennara

Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.

Lionessur í Keflavík styrktu á dögunum kaup á lestæki fyrir blindan nemanda í Myllubakkaskóla. Lestækið samanstendur af skjá, myndavél og vinnuborði. Það sem skoða á er lagt á vinnuboðið og myndavélin varpar því á skjáinn. Hægt er að stjórna því hversu mikið myndefnið er stækkað og skerpa línur eða myndir. Einnig er hægt að skipta um liti, hægt er að velja að hafa í lit eða svarthvítt og að velja ýmsa liti á bókstafi og bakgrunni. Vinnuborðið er á sleða sem hægt er

Hringbraut 99 - 577 1150

fimmtudagur 22. desember 2016

Á myndinni er Michalina Sandra Hirsz ásamt þeim Áslaugu Bergsteinsdóttur og Þorbjörgu Hermannsdóttur frá Lionessuklúbbi Keflavíkur. Með þeim á myndinni eru Svala Reynisdóttir, stuðningsfulltrúi og Helena Rut Borgarsdóttir, sérkennari.

að færa bæði lóðrétt og lárétt eftir því hvar nemandinn er staddur í bókinni sem verið er að vinna með, þannig þarf sem minnst að færa bókina til. Að sögn Helenu Rutar Borgarsdóttur, sérkennara við Myllubakkaskóla, mun lestækið skipta sköpum í námi Michalínu Söndru Hirsz, sem er blind. Með tækinu mun hún geta tekið þátt í því sem fram fer í skólastofunni, geta

unnið í skólabókum sínum, séð hvað kennari er að gera uppi á töflu og hvað nemendur eru að gera inni í skólastofunni. Tækið er á hjólaborði svo auðvelt er að ferðast með það á milli stofa. Hægt er að nota tækið við lestur og skrift en einnig ýmislegt fleira eins og að skoða myndir eða gera handavinnu.

Bílaviðgerðir - Partasala

Verið velkomin

Kaupum bilaða og tjónaða bíla

Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

24 des kl. 17.00 Hátíðarsamkoma 25.des. Engin samkoma jóladag.

www.bilarogpartar.is

Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

sími 421 7979

SENDUM VIÐSKIPTAVINUM OG ÖÐRUM SUÐURNESJAMÖNNUM BESTU

jóla - og nýárskveðju Sendum öllum Suðurnesjamönnum bestu jóla - og nýárskveðjur, þökkum fyrir viðskiptin á árinu FINNDU OKKUR Á FACEBOOK

Gleðileg og farsælt komandi ár VIÐJólBREYTUM! Þökkum kærlega fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða. LANGBEST VERÐUR LOKAÐ MILLI JÓLA OG NÝÁRS VEGNA BREYTINGA. Sjáumst á nýju ári!

SENDUM BÆJARBÚUM OKKAR BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR

VIÐ OPNUM ENDURBÆTTAN VEITINGASTAÐ 2. JANÚAR. Óskum viðskiptavinum gleðilegrar hátíðar og sjáumst hress á nýju ári. Starfsfólk Langbest


EITTHVAÐ FYRIR ALLA MEÐ BLUE LAGOON SKIN CARE Frí heimsending um land allt: vefverslun.bluelagoon.is

Laugarvegur 15, 101 Reykjavík


10

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

Óskum öllum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla, takk fyrir það liðna og gleðilegt nýtt ár.

Brynja Sigfúsdóttir á skrifstofu Samkaupa afhenti Helgu Pálsdóttur nýjan Iphone 7 sem hún vann í Jólalukku Víkurfrétta.

Þökkum fyrir viðskiptin á arinu sem er að líða.

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Sæmundur með gamla Nokia símann og nýja Iphone 7 símann.

„Ég nota kannski Iphone-inn í útskriftargjöf fyrir drengina“ ●●Iphone og ferðavinningar til heppinna Jólalukkuhafa Helga M. Pálsdóttir, íbúi við Suðurgötu í Keflavík var nýbúinn að fá nýjan síma þegar hún var dreginn út í fyrsta útdrætti Jólalukkunnar en hún skilaði miðum í kassa í Nettó í Njarðvík. „Ég er með tvo unga menn í fjölskyldunni sem eru að útskrifast úr námi næsta vor. Ég gæti kannski notað þennan flotta Iphone í það, er það ekki?“ sagði Helga þegar blaða-

maður VF sveif á hana þar sem hún var að taka við símanum á skrifstofu Samkaupa í Krossmóa. Sæmundur Pétursson, íbúi við Kirkjuveg 1 í Keflavík var einnig með heppnina með sér í fyrsta útdrætti. Hann er núna splunkunýjum Iphone 7 ríkari. Sæmundur veifaði gamla Nokia símanum og sagði að nú væru tímamót hjá honum. Ný símaöld að taka við.

Sigrún var alsæl með ferðavinninginn sinn.

Starfsfólk Olís óskar Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir viðskiptin og samskiptin á árinu sem er að líða.

ódýrt bensín Fitjabakka 2-4

Fitjabakka Njarðvík

Básinn Vatnsnesvegur 16

Sigrún Siglufjarðarmær ánægð á Suðurnesjum ●●Vann ferðavinning í Jólalukku og ætlar að nota hann í ferð til dótturinnar í Bandaríkjunum „Þetta var æði. Ég var nýbúinn að skafa eina tveggja lítra Appelsín og tuðaði við sjálfa mig af hverju ég fengi ekki stærri vinning. Svo kom þessi glæsilegi vinningur sem kemur sér vel því dóttir mín býr í Bandaríkjunum,“ segir Sigrún Ingólfsdóttir en hún er nýbúi á Ásbrú og vann ferðavinning með Icelandair í Jólalukku VF og verslana á Suðurnesjum. Sigrún flutti á Ásbrú í fyrra og er búin að búa í Reykjanesbæ í um ár eftir að hafa búið á Siglufirði í nærri fjörutíu ár. Fór ung stúlka á vertíð og festist

á staðnum, átti börn og góða ævi í firðinum norður í landi. „Mér finnst mjög fínt hér suður með sjó, er þó að venjast vindinum sem er ekki svona fyrirferðamikill á Sigló,“ segir hún. Sigrún ákvað að elta börnin sín og barnabörnin sem búa á Suðurnesjum og í Hafnarfirði. „Ég var að missa af þeim hreinlega og ákvað að flytja mig nær þeim. Mér finnst ég öll hafa lifnað við að hitta börnin og barnabörnin miklu oftar svo þetta er bara æðislegt hérna,“ sagði hin glaði vinningshafi Sigrún Ingólfsdóttir.


25

Hársnyrtitæki

Pottar og pönnur

ÁR HJÁ

20%

20%

afsláttur

afsláttur

Alsjálfvirk, afkastamikil og endingagóð kaffivél til heimilisnota. 5 ára reynsla á Íslandi

Fjögurra brauða rist með brauðbollugrind.

Jóla dagar

kr. 6.990,-

Gleðilegar og gagnlegar vörur á góðu verði

Sterk keramik húð, sem rispast ekki. Þolir háan hita. Góð handföng. Auðvelt að þrífa að utan og innan. Líka í uppþvottavél.

Verð frá 5.990,-

kr. 79.900,-

Allinox Góðir og stórir stálpottar á fínu verði.

Þrifalegu ruslaföturnar vinsælu eru til í mörgum stærðum, gerðum og litum.

MS23F301EAS

23 lítra örbylgjuofn.

ð tilbo a l ó J kr. 19.900,Smoothie Twister Samlokugrill

kr. 7.990,-

kr. 6.990,Skaftryksuga m/Lithium rafhlöðu

EQUIPT kr. 13.900,-

kr. 29.900,-

VOLTA

ZWILLING vörurnar eru lofaðar af fagmönnum um allan heim.

Lilly m/hleðslurafhlöðu

kr. 3.990,-

FYRIR HEIMILIN Í LANDINU

nýr vefur Netverslun Opnunartímar: 22. desember kl. 10-19 Þorláksmessa kl. 10-21 Aðfangadagur kl. 10-12

HAFNARgötU 23 REYkjANEsbæ · sÍMI 421-1535

Greiðslukjör Vaxtalaust í allt að 12 mánuði


12

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

Opið allan sólarhringinn

Í NÝRRI KRAMBÚÐ Ný og glæsileg Krambúð þar sem áður var Samkaup Strax verslun að Hringbraut 55 í Reykjanesbæ hefur verið opnuð. Er þetta þriðja Krambúðarverslunin á landinu sem Samkaup opnar, en hinar eru við Skólavörðustíg í Reykjavík og á Húsavík. Krambúðin verður opin allan sólarhringinn og er verslun sem býður upp á það nauðsynlegasta í matvöru með mikla áherslu á að leysa þarfir viðskiptavina sem eru á hraðferð eða vilja versla þegar aðrar verslanir hafa lokað. Lagt er upp með að viðskiptavinir geti orðið sér út um þær vörur sem þarf til heimilisins hverju sinni á hagstæðu verði. Fyrir fólk sem vantar skyndilausnir þá verður boðið uppá bakað á staðnum, tilbúna rétti, samlokur, tilbúin salöt, Take-Away kaffi o..fl. o.fl. Krambúðin Hringbraut verður eins og áður segir opin allan sólarhringinn og kemur þannig til móts við þá sem eru á ferðinni utan hefðbundins opnunartíma matvöruverslana.

Verslun í 60 ár í húsinu

Opnunardagur Krambúðarinnar er sérstakur en sama dag, 15. desember, voru liðin 60 ár frá opnun verslunar í húsinu. Um var að ræða fyrstu sjálfsafgreiðsluverslunina á Suðurnesjum að sænskri fyrirmynd. Áður hafði það tíðkast að kaupmaðurinn stæði fyrir aftan búðarborðið og sækti vörurnar sjálfur. Það þótti því nýstárlegt að viðskiptavinurinn gæti sjálfur sótt vörurnar í innkaupakörfuna. Þótti sumum þessi aðferð vafasöm. Verslunin hét fyrstu árin Kjörbúðin en það nafn hefur nú verið tekið upp aftur á keðju verslana í eigu Samkaupa. Verslunarhúsnæðið var stækkað árið 1976 og nafnið Sparkaup tekið upp um leið og versluninni breytt í lágvöruverðsverslun. Verslunin bar nafnið Sparkaup þar til hún fékk nafnið Samkaup Strax. Nú hefur verslunin við Hringbraut gengið í gegnum mikla endurnýjun, hún verið minnkuð um 100 fermetra og opnuð allan sólarhringinn með breyttum áherslum eins og rakið er hér að framan.

Starfsfólk Sparkaupa árið 1978.

GEFÐU GÓÐA GJÖF UM JÓLIN

Oakley brettaog skíðagleraugu, margar gerðir, frá kr. 7.800

Oakley brettaog skíðahjálmar, margir litir, frá kr. 25.900


DEKKJAÞJÓNUSTA / SMURÞJÓNUSTA / VIÐGERÐIR

Við þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Óskum viðskiptavinum okkar gleði og öryggis yfir hátíðarnar og farsældar á komandi ári.

Njarðarbraut 9 260 Reykjanesbæ 420 3333

Opið Virka daga frá 8 til 18 www.nesdekk.is / reykjanes@nesdekk.is


Allt fyrir sluna i e v u s s e m Þorláks

Opnunartí

21. des. mið vikudagur 22. des. fim mtudagur 23. des. Fö studagur 24. des. la ugardagu r 27. des. þr iðjudagur

998 kr. kg

1.298 kr. kg

NF Saltfiskbitar Útvatnaðir, frosnir

Fiskbúðin okkar Skata Kæst og söltuð

mi

10-20 10-21 10-22 10-14 11-18:30

Gleðileg J ól Starfsfól k

Bónus

NÝ UPPSKERA

Beint frá S-Afr

íku

779

2.798 kr. kg

kr. kg

Græn Vínber Ný uppskera frá S-Afríku

Hið eina sanna

Norðanfiskur Reyktur eða grafinn lax

Með þrúgusykri

kr. 0,5 l

95

kr. 0,5 l

95

kr. 0,5 l

95

kr. 330 ml

Víking Hátíðarblanda 0,5 l

Víking Malt 0,5 l

Egils Appelsín 0,5 l

Faxe Kondi 330 ml

49

700g

1,5L

F

195 kr. 1,5 l

Coca Cola 1,5 l

169 kr. 100 g

698 kr. 700 g

Toblerone 100 g

Verð gildir til og með 25. desember eða meðan birgðir endast

Appolo Lakkrís 700 g


98% kjöt

1.998 kr. kg

1.359 kr. kg

3.198 kr. kg

Kalkúnabringa Þýskaland, frosin

Bónus Hamborgarhryggur Með beini

Nautalundir Þýskaland, frosnar

HÁTÍÐARMATUR Á GÓÐU VERÐI Vinsælasti

hamborgarhryggurinn

Norðlenskt kofareykt

hangikjöt

í Bónus

1.959 kr. kg

1.698 kr. kg

Ali Hamborgarhryggur Úrbeinaður

Ali Hamborgarhryggur Með beini

2.098 kr. kg

2.898 kr. kg

KF Hangiframpartur Kofareyktur, úrbeinaður

KF Hangikjöt Kofareykt, úrbeinað

lambalæri með villtum íslenskum kryddjurtum

SAMA VERd

um land allt

ufugl l is e v r u k Fers gu með fyllin

998 kr. kg

1.898 kr. kg

1.498 kr. kg

Veislufugl Með fyllingu, ferskur

Kjarnafæði Hangilæri Kofareykt, með beini

Kjarnafæði Heiðalamb Kryddað lambalæri, ferskt

Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00


16

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

Díana Hilmarsdóttir, forstöðukona Bjargarinnar, ásamt Emil N. Ólafssyni. VF-mynd/dagnyhulda

ENGINN STAÐUR EINS OG

BJÖRGIN

Hjá Björginni, geðræktarmiðstöð Suðurnesja, hefur líðandi ár verið erfitt vegna óvissu um framhald starfseminnar en nú horfir til bjartari tíma. Díana Hilmarsdóttir, forstöðukona Bjargarinnar, segir mikilvægt að uppræta fordóma gagnvart andlegum veikindum.

Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@vf.is

Búið er að tryggja rekstur Bjargarinnar, geðræktarmiðstöðvar Suðurnesja, út árið 2017. Sú staða kom upp fyrir um ári síðan að útlit væri fyrir að vegna niðurskurðar hjá Reykjanesbæ þyrfti að loka Björginni um mitt þetta ár. Með samstilltu átaki einstaklinga, félagasamtaka, sveitarfélaga og ríkisins var lokuninni afstýrt. Nú síðast á dögunum var undirritaður samningur um tveggja milljóna króna styrk frá Rauða krossinum til Bjargarinnar. Að sögn Díönu Hilmarsdóttur, forstöðukonu Bjargarinnar, er nú unnið að því hörðum höndum að tryggja að reksturinn verði til framtíðar. Hún er bjartsýn á að það takist. Díana tók við forstöðu Bjargarinnar fyrr á árinu eftir að forveri hennar, Hafdís Guðmundsdóttir, lést eftir stutta en erfiða baráttu við krabbamein. Áður hafði Díana starfað hjá Björginni frá árinu 2014. Björgin er athvarf þar sem veitt er endurhæfing og eftirfylgd fyrir fólk með geðheilsuvanda. Að sögn Díönu er athvarfið fyrir einstaklinga sem flestir eru á endurhæfingarlífeyri og örorku, eru annað hvort í hlutastarfi eða óvinnufærir. „Endurhæfingin er einstaklingsbundin og helsta markmiðið með henni er að aðstoða einstaklinginn til sjálfshjálpar. Einstaklingar eru hér í endurhæfingu í skemmri eða lengri tíma, allt eftir því hvar þeir eru staddir. Frá okkur fara þeir svo í nám, út á vinnumarkaðinn eða á örorku ef heilsa þeirra er slík,“ segir hún. Mikil áhersla er lögð á að rjúfa félagslega einangrun einstaklinga hjá Björginni og efla sjálfstæði þeirra sem þangað leita og draga úr innlögnum á stofnanir. Díana segir

starfið hjá Björginni mjög gefandi og þá sérstaklega að geta hjálpað fólki til sjálfshjálpar. „Það er yndislegt að fá að fylgja fólki og sjá það byggja sig upp, ná bata og geta gert það sem það vill, hvort sem það er nám, vinna, sjálfboðastarf eða annað. Mér finnst yndislegt að geta verið til staðar fyrir fólkið mitt.“

Þörf á öðrum geðlækni

Pétur Hauksson, geðlæknir, kemur í Björgina einu sinni í viku og er hann eini geðlæknirinn sem starfar á Suðurnesjum. Díana segir mikla ásókn í tíma hjá honum og að fyrir hafi komið að töluverð bið myndist eftir tíma. Því sé ekki vanþörf á að fá annan geðlækni til starfa á Suðurnesjum. Starfið hjá Björginni hefur þróast frá stofnun árið 2005 og hefur fjöldi þeirra sem þangað sækja þjónustu aukist jafnt og þétt síðan. Aðspurð að því hvort farið sé eftir fyrirmynd annars staðar frá við starfið í Björginni segir Díana nokkrar stofnanir hér á landi fást við svipuð verkefni og Björgin. „Ég vil þó leyfa mér að segja að það sé enginn staður eins og Björgin starfræktur hér á landi.“ Björgin vinnur einnig að því að auka þekkingu almennings á geðheilbrigðismálum. Björgin var á sínum tíma með verkefni sem hét Geðveik hönnun, félagar í Björginni gáfu út ljóðabók og föndruðu ýmislegt sem var svo selt til styrktar Björginni. Árlega var farið í göngu á alþjóða geðheilbrigðisdaginn þann 10. október hér í Reykjanesbæ ásamt fleiru. Björgin hefur tekið þátt í listasýningum og núna síðast List án landamæra þar sem myndir eftir einstaklinga í Björginni voru á veggjum í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum að Krossmóa 4.

Óvissan erfið

Síðastliðið ár hefur verið mjög þungt í skauti vegna óvissu með starfsemi Bjargarinnar, að sögn Díönu. „Við vorum undirmannaðar stóran hluta árs og þurftum því miður að draga úr ákveðinni þjónustu um tíma. Nú erum við fullmannaðar á nýjan leik með öflugt starfsfólk sem er stútfullt af hugmyndum fyrir Björgina og starfssemi hennar. Við höfum hugsað okkur að koma annað slagið með fróðleik í formi pistla eða greina inn á heimasíðu Bjargarinnar www.bjorgin.is með það að markmiði að okkar fólk sem og aðstandendur og almenningur lesi sér til fróðleiks og upplýsinga til að draga úr fordómum og vanþekkingu á geðrænum vanda. Það er verið að vinna í heimasíðunni okkar hörðum höndum, gera hana aðgengilega fyrir alla, að fólk geti leitað sér upplýsinga um geðsjúkdóma á síðunni og þau úrræði sem eru í boði í samfélaginu. Við erum með ýmislegt á takteinunum þannig að endilega fylgist með okkur.“ Díana segir mjög mikilvægt að auka þekkingu almennings á geðheilbrigðismálum, bæði til að fólk skilji að fólk með geðrænan vanda er eins og hver annar. Einnig sé brýn þörf á að fólk fái fræðslu á mannamáli um það hvernig geðsjúkdómar virka. „Það hefur verið ákveðinn stimpill

á fólki með geðsjúkdóma í gegnum tíðina og einnig á Björginni, að það sé svo veikt fólk hér. Ef einstaklingur fótbrotnar þá fer hann í gifs og þarf hækjur. Einstaklingur sem glímir við andleg veikindi hefur þann möguleika að koma í Björgina og fá sitt gifs og sínar hækjur hér,“ segir Díana. Hún segir vanta meira hér á Suðurnesjum að einstaklingar með geðrænan vanda og sömuleiðis með skerta starfsgetu fái tækifæri á vinnumarkaði til að sýna hvað í þeim býr. „Flestir þessara einstaklinga hafa ekki verið á atvinnumarkaði um tíma og þurfa tíma til aðlögunar, fá að byrja í hlutastarfi og auka við sig hægt og rólega. Sumum hverjum hentar hlutastarf og öðrum hentar fullt starf. Það þarf að sýna skilning og sveigjanleika. Það á ekki að vera feimnismál þegar maður sækir um vinnu að maður eigi við geðrænan vanda að stríða, það á ekki að eyðileggja fyrir manni.“ Fólkið sem leitar til Bjargarinnar fær tilvísanir frá fagaðilum hérna á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu, meðal annars frá Virk, Vinnumálastofnun, Samvinnu, Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum, Landspítalanum, Reykjalundi og frá sveitarfélögunum á svæðinu. Einnig kemur fólk í Björgina af sjálfsdáðum eftir að hafa heyrt af starfinu frá öðrum.

„Það á ekki að vera feimnismál þegar maður sækir um vinnu að maður eigi við geðrænan vanda að stríða, það á ekki að eyðileggja fyrir manni“

Stofna sjóð til minningar um Hafdísi Guðmundsdóttur ■■Undirritaður var samningur um styrk að upphæð tvær milljónir frá Suðurnesjadeild Rauða krossins til Bjargarinnar á dögunum. Á myndinni má sjá Hannes Friðriksson frá Rauða krossinum og Kjartan Má Kjartansson, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, við undirritunina, ásamt fólkinu í Björginni. Kjartan þakkaði Hannesi fyrir elju og dugnað sem hann hefur sýnt við baráttu fyrir áframhaldandi starfsemi Bjargarinnar. Styrkurinn frá Rauða krossinum er upp á tvær milljónir og hefur þegar rúmlega einni milljón verið varið til kaupa á ýmsum húsgögnum og búnaði. Það sem eftir er verður nýtt til að stofna sjóð til minningar um Hafdísi Guðmundsdóttir, fyrrum forstöðukonu Bjargarinnar, sem lést á árinu. Úr sjóðnum verða veittir styrkir til menntunar fólks sem sótt hefur Björgina.


t

ÚRVALIÐ ER HJÁ OKKUR LED sjónvörp á frábæru verði með 3 x HDMI tengi

ANDROID ULTRA HD

49“ Philips 49PUT6401

VERÐ

109.995

FULL HD SJÓNVARP

55“ Philips 55PUT6401

2 GamePad stýripinnar að verðmæti 9.990 fylgja með.

32“

40“

United 32LEDX17T2

United 40LEDX17T2

VERÐ

VERÐ

24.995

44.995

50“

United 50LEDX17T2

VERÐ

59.995

ULTRA

HD

65“

United 65LEDX17T2

VERÐ

Philips PUT6401 Smart LED sjónvarp með Ultra HD 4K 3840x2160p upplausn og Pixel Plus Ultra HD. Micro Dimming Pro, 800 Hx PPI, Ambilight 2 bakljós og Android 5.1 nettenging með Google Play store. Netflix í 4K, 3 x USB og 4 x HDMI tengi.

109.995

Lenco L3867 Plötuspilari með innbyggðum formagnara og USB tengi. 33/45 snúninga.

VERÐ

19.995 FRÁBÆRT VERÐ

VERÐ

129.995

Ariete 2952 Poppvél með heitum blæstri. Tekur 2 mínútur að poppa. Gegnsætt lok með áfyllingar íláti.

VERÐ

REVLON RVHA6475 Hárblásari með bursta. Þurrkar og sléttir úr hárinu á sama tíma. Með jónatækni.

VERÐ

7.995

5.495

FRÁBÆRT VERÐ

FRÁBÆRT VERÐ

KAUPAUKI Melissa 16310176 SOUS VIDE vacumsuðutæki fyrir alla potta. Dælir vatni í 360°. LED skjár. Nákvæm hitastýring frá 5-100°C. Nákvæmni uppá 0,1°C. Tímastillir.

2 Senseo kaffiglös og 5 pakkar af kaffi

Philips HR1603 550W Daily Collection töfrasproti með ProMix hnífum og þægilegu handgripi. Þeytari / hakkari og 0.5L skál fylgja.

VERÐ

VERÐ

17.995

7.995

FRÁBÆRT VERÐ

FRÁBÆRT VERÐ

meðan birgðir endast

Philips HD781760 Original Senseo kaffivél sem hellir upp á 1 eða 2 bolla í einu.

LEGT ÓTRÚ ILBOÐ T JÓLA

6Á9ÐU.R9749.9955

VERÐ

13.995 FRÁBÆRT VERÐ

3Á2ÐU.R9369.9955

1Á2ÐU.R9149.9955 ACE-NXGCEED042

ASU-VX248H

FHD SKJÁR OG SSD

8” SPJALDTÖLVA Í JÓLAPAKKANN

24” FULLHD Á JÓLATILBOÐI

Ótrúlegt verð fyrir fartölvu með Intel örgjörva, 8GB minni og 128GB SSD disk. 15,6” kristaltær Full HD skjár.

Vinsæl 8” spjaldtölva fyrir börnin sem geta valið úr þúsundum ókeypis leikja í Google Playstore . Ótrúlegt verð.

Glæsilegur Asus UltraSlim háskerpuskjár sem getur tengst við flest öll tæki. HDMI og innbyggðir hátalarar.

11. 995 LEIKJAMÚS

Allt efnið er birt með fyrirvara um prentvillur og myndabrengl.

NEX-NX785QC8G

RAZ-RZ0101210100R3G1

8.995

95 9ÁÐ.9 UR 11.995

I

STÝRIPINN

MS-52A00005

EPS-XP235

LEGT ÓTRÚ RÐ VE

9.995 ÁÐUR 11.995

TOS-HDTB310EK3AA

5GT9X 10.9609GÆ5ÐI

ASU-STRIXGTX1060O6G

RAZER DEATHADDER CHROMA

STÝRIPINNI FYRIR XBOX OG PC

ÞRÁÐLAUS HEIMILISPRENTARI

TRAUSTUR 1TB VASAFLAKKARI

GTX1060 LEIKJASKJÁKORT

Sérstaklega vinsæl og næm leikjamús. 10.000 DPI optískur skynjari og Chroma lýsing með 16,8 milljónum lita.

Vinsæll og vandaður USB stýripinni fyrir XBOX 360 og PC tölvur frá Microsoft.

Ótrúlegt jólatilboð á þessum fjölnota heimilisprentara sem prentar, skannar og ljósritar. Einfaldur í notkun.

Traustur og handhægur 1TB Toshiba Canvio vasaflakkari á jólatilboði. Háhraða USB 3.0 og fær rafmagn í gegnum USB snúruna.

6GB Asus Strix GTX1060 með þremur viftum og þriggja ára ábyrgð. VR Ready og hljóðlátt.

ht.is HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ Sími 414 1740


18

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

ÍSLENDINGUR

MEÐ BANDARÍSKT VEGABRÉF Flugumferðarstjórinn Brenton Birmingham um ferilinn og lífið eftir körfuboltann ●●Átti erindi í NBA l Ætlaði að hætta 22 ára ●●Lék vonda gaurinn í körfuboltamynd l Fór í áheyrnarprufu hjá Spike Lee

Það mætti alveg deila um það hvort örlögin hafi hreinlega ætlað Bandaríkjamanninum Brenton Birmingham að setjast að á Íslandi. Það var fyrir algjöra tilviljun að hann endaði hér þegar hann eltist við æskudrauminn. Í hans tilfelli féllu öll vötn til Njarðvíkur en þar hefur hann endað oftar en einu sinni eftir að hafa leitað á önnur mið. Þar fann hann ástina og átti ákaflega farsælan feril í körfubolta. Nú sér hann um að stjórna flugumferðinni á Keflavíkurflugvelli þar sem hinn yfirvegaði Brenton nýtur sín til fulls.

Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is

„Góðan daginn! Er möguleiki fyrir þig að hittast klukkan 13:00,“ segir Brenton og tekur þannig af allan vafa blaðamanns um hvort hann hafi átt að senda viðtalsbeiðnina á íslensku eða ensku. Brenton, sem fyrst kom til Íslands fyrir 18 árum hefur náð góðum tökum á íslenskunni og talar hana vel. Hann er giftur Njarðvíkingnum Berglindi Sigþórsdóttur og saman eiga þau þrjá drengi sem hann tjáir sig við á ensku, enda vill hann að þeir læri hans móðurmál. Foreldrar Brentons áttu spænsku að móðurmáli og er hann satt að segja frekar súr að þau hafi ekki kennt honum spænsku þegar hann var að alast upp í Bronx hverfi New York borgar. Hann á rætur að rekja til Karíbahafsins. Móðir hans flúði Kúbu þegar Castro komst þar til valda. Faðir hans á svo uppruna sinn að rekja til Jamaíka og Kúbu. Lífið í Bronx var ekki auðvelt á áttunda áratug síðustu aldar þar sem mikið var um gengi og ofbeldi. Brenton segist þó ekki hafa upplifað ofbeldi eða neitt slíkt af eigin raun enda alinn upp til þess að halda sig á mottunni. Hann náði alfarið að sniðganga vandræði og öll vímuefni og var snemma farinn að stunda íþróttir. Brenton var góður íþróttamaður og frambærilegur námsmaður. Hann komst inn í menntaskóla í Brooklyn þar sem hann byrjaði að mæta á körfuboltaæfingar. Hann segir sjálfur að hann hafi verið hrár leikmaður í fyrstu en hafði góðan grunn til að byggja á.

Versti leikur ferilsins fyrir framan stóru skólana

Ekki voru margir af stóru háskólunum sem sýndu Brenton áhuga þrátt fyrir fínan feril í framhaldsskóla. Skólar úr 2. og 3. deild sýndu honum áhuga. Aðeins einn skóli úr 1. deild háskólaboltans vildi fá Brenton í sínar raðir. Það var Brooklyn háskólinn, sem er lítill einkaskóli sem lék utan deildar í þá daga. Brenton þekkti aðstoðarþjálfarann sem vildi ólmur fá hann, en aðalþjáfarinn var ekki sannfærður. Brenton spilaði mikilvægan leik í úrslitakeppni í borginni sem þjálfararnir komu að sjá. Þarna var stóra tækifærið fyrir ungan leikmann. „Við töpuðum leiknum og ég hitti úr einu af 18 skotum mínum í leiknum,“ rifjar Brenton upp og skellihlær. „Þetta er ennþá versti leikurinn á ferli mínum og það er óhætt að segja að þjálfararnir hafi ekki verið sannfærðir.“ Þjálfarar frá öðrum stórum skólum voru á leiknum og ljóst að nafn Brenton var strikað af mörgum listum þetta kvöld. Brenton fékk þó annað tækifæri og komst í Brooklyn skólann á hálfum skólastyrk þar sem hann þótti ekki nægilega góður. Með góðri spilamennsku vann Brenton sér inn fullan styrk og lék með skólanum í tvö ár. Þá fékk hann slæmar fréttir. Skólinn var í fjárhagskröggum og þurfti að leggja niður allar íþróttir. Þá var Brenton á byrjunarreit og þurfti að leita sér af nýjum skóla. Flestir skólarnir í umdæminu voru áhugasamir enda komst Brenton í úrvalslið í fylkinu eftir annað árið sitt í Brooklyn. „Ég gerði munnlegt samkomulag við Davidson skólann í Norður Karolínu en komst ekki inn þar sem einkunnirnar voru ekki nægilega góðar. Það var algjör vendipunktur í lífi mínu og ég var

mjög vonsvikinn. Ég var bara að gera það sem þurfti til að skrimta námslega séð en það kom mér í koll á endanum.“ Á síðustu stundu kom Manhattan skólinn til sögunnar þar sem Brenton kláraði háskólaferilinn. Þar var Brenton í frægðarhöllinni og átti glæstan feril og leiddi liðið meðal annars til NCAA-úrslita þar sem liðið tapaði gegn sterku Virgina liði. Brenton varð besti leikmaður liðsins og einn af þeim bestu í New York umdæminu auk þess sem hann bætti úr námsárangrinum og var verðlaunaður á þeim vettvangi. Hann taldi því að hann ætti möguleika á að verða atvinnumaður. Ef ekki NBA deildin þá Evrópa. „Ef þú ferð í lítinn skóla þarftu að gera eitthvað stórkostlegt til þess að vekja athygli á þér. Þeir fá ekki mikla umfjöllun,“ segir Brenton en hann hlaut ekki náð fyrir augum NBA liða eða stóru liðanna í Evrópu. Hann þurfti virkilega að hafa fyrir því að komast í atvinnumennsku.

Skrykkjótt leiðin í atvinnumennsku Eftir að ljóst varð að Brenton myndi ekki að ná að upplifa drauminn strax eftir útskrift lék hann með liði sem ferðaðist um landið og spilaði æfingaleiki við háskólalið. Hann segir það hafa verið mikið hark. „Við spiluðum 22 leiki á 30 dögum og fórum vítt og breitt um Bandaríkin. Þjálfarinn í því liði kom mér á fyrsta samninginn minn sem atvinnumaður í Finnlandi.“ Þar lék Brenton aðeins hluta af tímabili en fékk ekki áframhaldandi samning. Á besta aldri sagði Brenton því skilið við körfubolta í þrjú ár. Hann þjálfaði þá kvennaliðið við gamla háskólann sinn. „Ég leit svo

á að ég væri hættur í körfubolta 22 ára gamall. Ég ætlaði þá að snúa mér að þjálfun og gera starfsframa úr því.“ Ástríðan var ekki beint til staðar í þjálfun en Brenton hafði gaman af því að vera í kringum körfubolta. Þegar Brenton greip í körfubolta þá fór hann jafnan illa með andstæðinga sína. Fólk furðaði sig á því af hverju hann væri ekki að spila.

Fór í áheyrnarprufu hjá Spike Lee og lék vonda gaurinn í bíómynd

Þegar hann var í fríi frá körfubolta daðraði Brenton við kvikmyndaiðnaðinn þar sem hann lék vonda gaurinn í körfuboltamyndinni Game day sem fór beint á dvd. Hann lék líka í auglýsingum sem sýndar voru um öll Bandaríkin og gáfu vel í aðra höndina. Brenton var einn af þeim sem komu til greina í stórmyndina He got game og fór í áheyrnarprufu hjá sjálfum Spike Lee. „Það gekk ekki vel og ég var mjög stressaður. Ég er enginn leikari og hafði enga þannig þjálfun, ég las bara beint upp af blaðinu,“ rifjar Brenton upp og hlær. Brenton var hvattur til þess að leggja auglýsingar fyrir sig en þá var hann þegar farinn að huga að körfuboltanum aftur. Eftir þrjú ár í dvala fékk hann boð um að reyna fyrir sér hjá liði í Kýpur. Í lélegu formi skoraði Brenton 30 stig gegn sterku liði í sínum fyrsta leik. „Í lok leiksins komst ég í hraðaupphlaup og lagði boltann ofan í í stað þess


fimmtudagur 22. desember 2016

19

VÍKURFRÉTTIR

segist ekki sjá eftir neinu. Svona gerast kaupin á eyrinni bara.

Nógu góður fyrir NBA deildina

Ýmsir örlagavaldar hafa orðið til þess að Brenton endaði á Íslandi en það er eitthvað sem hann óraði ekki fyrir þegar hann var ungur maður í Stóra eplinu. Hann er á þeirri skoðun að til þess að ná langt í körfubolta þá dugi hæfileikarnir einir saman ekki til þess að koma sér í deild þeirra bestu eða stóru háskólana þar sem sviðið er stærst. „Þú þarft að vera á réttum stað á réttum tíma og heppni spilar þarna inn í líka.“ „Ég held að Brenton hefði vel getað spilað í NBA deildinni eða í sterku liði í meistaradeild Evrópu. Hann er stór bakvörður sem er frábær varnarmaður, getur skotið og hefur boltatæknina,“ segir Njarðvíkingurinn Logi Gunnarsson, fyrrum samherji og vinur Brenton til fjölda ára. „Ég hef heyrt þessu fleygt fram. Ég trúi í hjarta mínu að ég hefði getað spilað í stórri deild í Evrópu. Bakið eyðilagði það eiginlega fyrir mér þegar ég var kominn með annan fótinn þangað í Frakklandi. Þegar allt kemur til alls þá þýðir lítið að horfa til baka, „it is what it is,“ segir Brenton á móðurmálinu. Brenton er annálað ljúfmenni utan vallar og ótrúlega vel liðinn hvar sem hann drepur niður fæti. „Hann verður þó grimmur inni á vellinum og breytist talsvert mikið. Hann er einn mesti sigurvegari sem hef spilað með,“ bætir Logi við um félaga sinn. Eftir atvinnumennsku í Frakklandi stoppaði Brenton stutt við í London en var sagt upp þar vegna bakmeiðslanna. Hann kom því heim til Njarðvíkur aftur og það tók hann í raun tvö ár að ná sér af meiðslunum sem þó há honum enn þann dag í dag. „Ég hefði líklega verið eins og Darrell Lewis að spila eftir fertugt ef það hefði ekki verið fyrir bakið,“ segir Brenton sem þó spilaði til 38 ára aldurs. „Ég vil geta labbað þegar ég verð sextugur og því er ég opinberlega hættur,“ segir hann kíminn. Brenton kann vel við sig í flugturninum þar sem mikilvægt er að vera rólegur undir álagi: „Góður flugumferðarstjóri getur séð eitthvað gerast fyrir og brugðist fljótt við án þess að frjósa eða fara á taugum.“ VF/mynd: Eyþór Sæm.

að troða. Stjórn liðsins líkaði illa við það. Áhorfendur vildu sjá Bandaríkjamennina troða.“ Stjórnin var á báðum áttum með að semja við Brenton sem var langt frá leikformi. Hann tók ákvörðunina fyrir þá og ákvað að yfirgefa Kýpur. „Ég var svo á Ítalíu á heimleið þegar ég fékk símtal frá umboðsmanninum mínum þar sem mér var boðið að fara til Íslands. „Okei ég er til,“ sagði Brenton án þess að hugsa sig um. Þannig hafnaði Brenton hjá Njarðvíkingum.

Frá Bronx til Njarðlem

„Þetta var smá sjokk í fyrstu, komandi frá New York. Ég á hins vegar auðvelt með að aðlagast og liðsfélagarnir mínir létu mér líða eins og heima hjá mér. Ég þurfti bara að venjast því að lífið gekk aðeins hægar fyrir sig en ég var vanur,“ rifjar Brenton upp um fyrstu mánuðina á Íslandi. „Ég skildi ekki hvernig það var hægt að tala á meðan maður dró andann, en fyrir utan það fannst mér Íslendingar yndislegt fólk,“ segir Brenton í gríni. Þetta var árið 1998 og voru Njarðvíkingar og Keflvíkingar með bestu lið landsins. Njarðvíkingar höfðu landað titlinum árið áður. Brenton sá fyrir sér að að nýta Ísland sem stökkpall í stærri deild og bjóst ekki við því að ílengjast hér. Á fyrsta tímabili Brentons á Íslandi töpuðu Njarðvíkingar svo fyrir erkifjendunum í lokaúrslitum. „Ég var miður mín og vildi koma aftur og vinna titilinn með Njarðvík. Þeir voru hins vegar að setja saman lið ÍRB (sameiginlegt lið Njarðvíkur og Keflavíkur í Evrópukeppni) og ákváðu að velja stóran erlendan leikmann.“ Brenton var því atvinnulaus og ekkert virtist vera að hlaupa á snærið. „Ég

fæ svo símtal frá Sævari Garðarssyni þar sem hann segir mér að Grindavík hafi verið að reka Kanann sinn, og hvort ég vilji ekki koma þangað.“ Aftur var hann kominn til Íslands. Einar Einarsson var þjálfari liðsins á þeim tíma. Hann gaf Brenton skotleyfi og fól honum að leiða liðið. Brenton átti sitt besta tímabil á ferlinum með Grindavík það ár og liðið varð bikarmeistari og tapaði í lokaúrslitum gegn KR. Brenton var maður tímabilsins og átti von á því að fá gott boð frá Grindvíkingum. „Þeir gerðu mér hins vegar móðgandi tilboð sem ég hafnaði. Njarðvíkingar sögðu hins vegar að þeir vildu fá mig aftur, að þeir hefðu gert mistök með því að láta mig fara og ég samdi við þá.“ Brenton var hálpartinn ættleiddur í Njarðvík þar sem Þórunn Þorbergsdóttir, gjaldkeri liðsins og Jón þáverandi maður hennar, tóku Brenton að sér. Hann átti sitt herbergi á heimili þeirra og var með lykil. Þar varð hann eins og einn af fjölskyldunni og heldur enn mjög nánu sambandi við Þórunni og fjölskyldu í dag.

fjórum sinnum bikarmeistari. Fjórum sinnum hefur hann tapað í lokaúrslitum, þrisvar gegn KR og einu sinni gegn Keflavík.

Eilífð vandræði með bakið

Eftir að hafa unnið allt sem var í boði árið 2002 með Njarðvíkingum þá kom loks tækifærið til að leika í stærri deild. Brenton fór þá til Frakklands þar sem hann lék með liði Rueil í B-deildinni. Þá var hann þegar byrjaður að finna

verulega til í bakinu og á endanum fór hann í uppskurð vegna brjóskloss, þá þrítugur að aldri. „Það voru sumir dagar þar sem ég féll í gólfið af sársauka og gat kannski ekki gengið í nokkra daga, ég vissi ekkert hvað var í gangi.“ Upp frá því háði bakið honum mikið og hamlaði því að hann næði að sýna sitt allra besta. „Bakið setti algjörlega strik í reikninginn á mínum ferli,“ viðurkennir Brenton en hann

Það voru sumir dagar þar sem ég féll í gólfið af sársauka og gat kannski ekki gengið í nokkra daga, ég vissi ekkert hvað var í gangi

Fjórfaldar tvennur og fjöldi titla

Ýmislegt hefur Brenton afrekað á körfuboltaferlinum þrátt fyrir brösuga byrjun. Tvisvar hefur hann náð því sem kallað er fjórföld tvenna, en það er afar sjaldgæft í körfubolta. Í leik með Grindavík gegn Keflavík í úrslitakeppni árið 1999 skoraði hann 17 stig, tók 14 fráköst, gaf 10 stoðsendingar og stal 10 boltum. Í lokaúrslitum Njarðvíkur og Tindastóls árið 2001 átti Brenton svo leik þar sem hann skoraði 28 stig, gaf 11 stoðsendingar, tók 10 fráköst og stal 10 boltum. Þrisvar hefur Brenton orðið Íslandsmeistari með Njarðvík (2001,2002 og 2006) og

Heilt byrjunarlið: Brenton ásamt sonum sínum. Elstur er Rúnar Ingi, svo er það Róbert Sean, næstur er Patrik Joe og svo Sigþór litli.


20 Lífið eftir körfuboltann

Þegar halla fór á síðari hluta ferils Brenton í körfuboltanum fór hann að hugsa um hvað tæki við. Hann ákvað að opna húsgagnaverslun við Hafnargötu í Reykjanesbæ árið 2006 og rak hana í tvö ár. Brenton og Berglind fóru að vera saman þegar Brenton var að fara að spila í Frakklandi en þar bjuggu þau saman. Þau eignuðust son saman 2004 en fyrir átti hún einn son. „Það var gaman í upphafi að reka búðina. Svo tekur raunveruleikinn við. Til þess að fyrirtækið virki þurftum við að njóta ákveðinnar velgengni. Svo kom kreppan og við þurftum að ákveða hvort við ættum að segja skilið við búðina,“ segir Brenton um húsgagnaævintýrið. Það stóð aldrei til að verða eftir á Íslandi þegar körfuboltanum lauk. „Berglind er ástæðan fyrir því að ég varð eftir á Íslandi. Eftir Frakkland þá varð Ísland heimahöfnin fyrir mér þar sem hún var hér. Það var ekki erfið ákvörðun að setjast að á Íslandi. Ef þú elskar einhvern þá skiptir staðsetningin engu máli. Ég sakna auðvitað fjölskyldu minnar í Bandaríkjunum mjög mikið en er að reyna að lifa mínu eigin lífi.“ Fyrir tilviljun fékk Brenton spurnir af námi flugumferðastjóra. Það er starf þar sem enska er fyrirferðamikil og mikilvægt er að vera yfirvegaður undir álagi. „Ég elska þessa vinnu og hlakka til þess að mæta á hverja vakt,“ segir Brenton sem hafði alltaf áhuga á flugi en var ekki áhugasamur um að vera flugmaður. „Ég er ekki flughræddur en kýs frekar að vera á jörðu niðri.“ Brenton skráði sig í námið hjá Keili árið 2009 og stóð sig mjög vel. Hann var ráðinn til Isavia í kjölfarið og kláraði réttindin ári síðar. „Margir hafa ákveðnar hugmyndir um starfið. Einn spurði mig til dæmis um daginn hvort við værum byrjaðir að starfa innandyra, hann hélt að við værum gaurarnir með ljósin sem leiðbeina flugvélunum við rampinn,“ segir hann og hlær. „Það eru mismunandi tegundir af flugumferðarstjórum. Þeir sem eru í turninum, en ég fæst við það núna. Svo eru það þeir sem stýra flugumferð á flugvöllum á Íslandi og í íslenska flugstjórnarsvæðinu sem er 5,4 milljónir ferkílómetrar að stærð og eitt það stærsta í heiminum. Svo eru aðrir sem stjórna aðflugi og ratsjánum. Það er svo ótalmargt í þessu sem fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir. Við verðum að vera með það á hreinu hvað fer fram á öllum flugbrautum þar sem umferð bíla og flugvéla er talsverð, svo er oft mikið um framkvæmdir á flugbrautunum og við fylgjumst vel með því.“

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

„Þessu starfi fylgir ákveðin streita og þú þarft að vera mjög einbeittur. Við erum auðvitað ekki eins og Heathrow í London og umferðin er ekki mikil miðað við þessa stóru flugvelli. Eins undarlega og það hljómar þá er það stundum þannig að okkar umferð er erfiðari en á þessum stóru völlum. Hér eru námsvélar og oft hervélar í bland við almenna umferð.“ „Við verðum að vera tilbúin að kveikja á okkur og takast á við verkefni á örskotsstundu. Það er ekki hægt að hita upp og teygja í þessum geira og hlutirnir gerast hratt.“ Þannig getur ýmislegt komið upp á og mistök geta haft alvarlegar afleiðingar. „Það gerist auðvitað ýmislegt þar sem mannlegi þátturinn er stór í starfinu. Góður flugumferðarstjóri getur séð eitthvað gerast fyrir og brugðist fljótt við án þess að frjósa eða fara á taugum.“ Brenton segir að liðsvinnan sé mikil eins og í körfuboltanum. Allir hafi sömu markmið og mikil áhersla er á samskipti. Brenton sér fyrir sér að starfa á þessum vettvangi lengi enda mjög hamingjusamur í starfi.

Fjórir strákar og fjörugt heimili

Brenton er mikill fjölskyldumaður. Þau Berglind eiga saman þrjá stráka og Berglind átti soninn Rúnar fyrir sem Brenton hefur verið uppeldisfaðir. „Ég elska fjölskyldulífið og það er fullkomið að ala upp börn á Íslandi.“ Strákarnir eru í körfubolta og tekur Brenton þar mikinn þátt. Hann er eiginlega „all in“ þar eins og maður segir. Mætir á öll mót og ráðleggur stákunum. „Ég segi þeim að þeir þurfi ekki að spila körfubolta út af mér. En ef þeir vilja spila körfubolta þá finnst mér að þeir verði að leggja 120% á sig og þá er ég til í að hjálpa.“

Stoltur Íslendingur sem öskrar yfir fótbolta

Brenton er eins og áður segir vel liðinn í samfélaginu en hann hefur þó fundið fyrir því að vera öðruvísi á stundum. „Að vera svartur maður á Íslandi, þá líður manni stundum eins og utanaðkomandi. Vegna þeirra sem eru mér nærri, fjölskyldu og vina sem mér þykir vænt um, þá gerist það mjög sjaldan.“ Brenton var eins og allir Íslendingar með fótboltaæði í sumar þegar EM stóð yfir. Brenton sjálfur lék á sínum tíma 19 landsleiki fyrir Íslands hönd. „Þegar við spiluðum við England, hver var ekki hoppandi og öskrandi af gleði? Ég bý yfir miklu íslensku stolti. Ég hef verið hér í 18 ár, næstum hálfa ævina, auðvitað er ég stoltur Íslendingur. Nú til dags skilgreini ég mig sem Íslending með bandarískt vegabréf,“ segir hinn geðþekki Brenton.

Góður í Grindavík: „Ég er mikill Njarðvíkingur en ber líka tilfinningar til Grindavíkur. Mér var nokkurn veginn ýtt þangað á sínum tíma. Ég hefði líklega spilað allan minn feril hjá Njarðvík á Íslandi ef þetta hefði ekki farið svona. Þetta snýst líka um viðskipti og tryggðin nær aðeins visst langt á báða bóga.“

Spilaði 19 landsleiki: „Jón Arnór er erfiðasti andstæðingurinn. Hann er besti leikmaður sem Ísland hefur átt. Hann er líka tíu árum yngri en ég og því var stundum erfitt að líta á hann sem andstæðing á sama stigi.“

Sú eina rétta: „Berglind er ástæðan fyrir því að ég varð eftir á Íslandi. Eftir Frakkland þá varð Ísland heimahöfnin fyrir mér þar sem hún var hér.“

Fingur-rúll: Eitt af einkennismerkjum Brenton, er hið svokallaða. „finger roll. Hann átti það nú líka til að troða boltanum hressilega.

Frægðarhöllin: Brenton átti frábæran feril í Manhattan skólanum. Brenton prófaði einu sinni að drekka í háskóla fyrir forvitnissakir. „Það var bara tilraun. Ég vissi strax að það yrði í eina skiptið.“


GLEÐILEGA HÁTÍÐ

Við óskum landsmönnum öllum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs.

Gjafakort Íslandsbanka hittir alltaf í mark og er gjöf með endalausa möguleika. Kortið má nota eins og önnur greiðslukort, bæði í verslunum um allan heim og á netinu. Þú færð gjafakortið í fallegum umbúðum í næsta útibúi Íslandsbanka.


22

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

Fjöldi á fundi um mengun frá kísilveri

Fjölmenni var í Stapa á fundinum.

●●Fulltrúi United Silicon baðst afsökunar á mengun ●●Margir íbúar tóku til máls á fundinum Fjöldi íbúa Reykjanesbæjar mætti á íbúafund í Stapa á miðvikudagskvöld í síðustu viku þar sem rædd var ófyrirséð mengun frá kísilveri United Silicon í Helguvík. Verksmiðjan hóf framleiðslu í haust og upp úr miðjum nóvember fóru íbúar að finna fyrir lyktar- og reykmengun og hafa Umhverfisstofnun borist fjölmargar ábendingar vegna þess. Að loknum framsögum á fundinum frá fulltrúum Reykjanesbæjar, United Silicon, Umhverfisstofnun og Orkurannsóknum Keilis gafst fundargestum kostur á að bera fram spurningar. Ýmis mál tengd uppbyggingu stóriðju í Helguvík brunnu á fundargestum og stóð fundurinn í rúmlega þrjár klukkustundir en þá var mælendaskrá lokað.

frá bæjarfélaginu vegna mengunar. „Við erum að ala upp kynslóð hér sem hefur staðið sig vel í Pisa-könnunum og við viljum hafa hana hér áfram, er það ekki?,“ sagði sá íbúi og uppskar lófaklapp fundargesta.

Óttast að íbúar flytji vegna mengunar Íbúi í næsta nágrenni við kísilverið lýsti því hvernig gasskynjari hafi farið gang þegar hann hafði útidyrahurð á heimili sínu opna um tíma. Hann lýsti yfir áhyggjum af því að önnur efni en þau sem verið er að mæla streymi frá verksmiðjunni. Íbúi við Heiðarholt benti á að leikskólinn Heiðarsel væri nálægt verksmiðjunni. Annar kvaðst upplifa stöðuna sem svo að hann væri staddur í skipulagslegu stórslysi þar sem hver vísi á annan. Þá lýsti íbúi í Reykjanesbæ yfir áhyggjum af því að ungt fólk myndi í framtíðinni flytja

Í framsögu Sigríðar Kristjánsdóttur, teymisstjóra eftirlitsteymis Umhverfisstofnunar, kom fram að skráð hafi verið 11 frávik frá ákvæðum starfsleyfis kísilvers United Silicon í Helguvík. Hún sagði skráningar United Silicon ekki hafa verið fullnægjandi og upplýsingar sem fulltrúar fyrirtækisins gáfu stofnuninni misvísandi. Þá lýsti hún því að sérfræðingar Umhverfisstofnunar hafi haft áhyggjur af samskiptum við fulltrúa fyrirtækisins. Hún minna fundargesti á að eftirlitsskýrslur um starfsemina væru aðgengilegar á vef stofnunarinnar.

Segjast vilja gott samstarf við nágranna

Kristleifur Andrésson, stjórnandi öryggis- og umhverfismála hjá United Silicon, sagði í framsögu sinni að fulltrúum fyrirtækisins þætti miður að íbúar hafi orðið fyrir óþægindum vegna byrjunarörðugleika sem þeir hafi glímt við. Hann sagði þá leggja áherslu á að eiga gott samstarf við nágranna sína, íbúa og bæjaryfirvöld.

11 frávik frá ákvæðum starfsleyfis

Umhverfisstofnun beitti þvingarúrræði í þar síðustu viku eftir að hafa skráð frávik en ekki fengið þau viðbrögð frá fyrirtækinu sem þau vonuðust til. Þvingunarúrræðið fólst í því að fyrirtækið skyldi ekki kveikja aftur á ofni eftir að slökkt var á honum í kjölfar vinnuslyss. Sigríður sagði að þá hafi fulltrúar United Silicon brugðist hratt við og sent gögn sem farið var yfir. Því var fyrirmælum aflétt og fyrirtækinu heimilt að kynda aftur upp í ofninum.

Fulltrúar United Silicon við háborðið, Helgi forstjóri þriðji frá hægri. Þeim til hliðar eru Sigríður Kristjánsdóttir og Þorsteinn Jóhannsson frá Umhverfisstofnun. VF-myndir/pket.

Háskólabrú í janúar

Flugvirkjanám í janúar

Tæknifræði í júní

Háskólabrú í ágúst

Íþróttaakademía í janúar

Atvinnuflugnám í júní

Til hamingju útskriftarnemendur!

Atvinnuflugnám í janúar

Háskólabrú í júní

Íþróttaakademía í júní

Leiðsögunám í júní

Árið 2016 útskrifaði Keilir 296 nemendur úr öllum deildum skólans. Við óskum þeim til hamingju með þennan áfanga og þökkum þeim fyrir árið sem er að líða.


Opið 9-22

alla daga fram að jólum

399

Krónan m

ælir með!

kr. stk.

Klementínur 950 g, Spánn

Nóatúns hamborgarhryggur

1899

kr. kg

Krónan m

ælir með!

Sjúklega gott!

FRIÐR IK Veislum

Bakið í 7 mínútur

V

atur

V RIuKmatur

Ð sl FRI Vei

30 smákökur i, úrval fyllinga

Lambalæri með sveppum og púrtvín

3199 Framle

iðandi

m

Fra

ndi

a leið

No

rð

sk len

ú aH

s

, avík

Norðle 800

60-8

s4

nska Hú

IS 1 A03 EFTA

savík, s

460-88

00

IS A031 EFTA

kr. kg

899

kr. stk.

egunda

17 Sortir smákökudeig, úrval bragðt

Tilboðin gilda til 26. desember. Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Afgreiðslutímar á www.kronan.is


24

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

RAUÐA KROSS BÚÐIN

kom unga fólkinu á óvart Rauði Krossinn á Suðurnesjum rekur fataverslun við Smiðjuvelli í Reykjanesbæ þar sem boðið er upp á fatnað sem fólk á svæðinu hefur gefið. Þar er mikið úrval af alls kyns fatnaði í öllum stærðum og gerðum. Við fengum með okkur tvo unga Suðurnesjamenn, þau Özru Crnac og Arnór Breka til þess að fara í Rauðakross-búðina og kaupa tvö „outfit“, eitt hversdags og annað aðeins fínna fyrir jólin. Þau fengu 10.000 krónur í heildina til þess og tókst vel til. AZRA:

„Pelsinn er hægt að nota við marga viðburði hvort sem það er rölt á Laugaveginum á köldum vetradegi eða á leiðinni í jólaboð.“

„Mun hiklaust fara aftur með vinkonurnar í eftirdragi“ ●●Magnað að geta endurnýtt gamlar flíkur sem eru að ● koma aftur í tísku á hagkvæman og umhverfisvænan hátt „Þetta verkefni sem við fengum var afar krefjandi. Ég vissi í rauninni ekki hvað ég var að koma mér út í en það hljómaði spennandi. Um leið og ég gekk inn í Rauða Krossinn blasti við mér fullt af fallegum flíkum og það tók mig ekki langan tíma að finna mér föt sem ég varð strax ástfangin af,“ sagði Azra Crnac. „Ég valdi mér tvær yfirhafnir, tvennar buxur, peysu og bol. Yfirhafnirnar hafði ég hugsað sem smá „blast from the past“ sem ætti við okkar nútíma tísku. Ég hef lengi leitað mér að dúnúlpu við hæfi, sem mér þykir temmilega „oversized“ en ekki of síð. Viti menn, það leyndist ein slík í fatarekkanum í búðinni. Það var fyrsta flíkin sem ég fann. Svo fann ég fallegan „vintage“ pels sem mig hefur lengi dreymt um en það er ótrúlegt hvað það leynast margar gersemar þarna inni. Pelsinn er hægt að nota við marga viðburði, hvort sem það er rölt á Laugaveginum á köldum vetrardegi eða

„Jóladressið var því samsett af kjólfötum að ofan, svartri skyrtu, vínrauðri slaufu og fann svo þessa fínu Chelsea boots.“

á leiðinni í jólaboð. Buxurnar voru ekki af verri gerðinni, mjög einfaldar gallabuxur sem ég fann með aðstoð starfsfólks. Starfsfólkið átti mikinn þátt í fatavalinu en ég þurfti ekki annað en að lýsa fyrir þeim flíkinni sem ég hafði séð fyrir mér og á augabragði voru þær mættar með hana skælbrosandi. Svoleiðis fann ég einmitt fínu, útvíðu buxurnar sem ég klæðist við pelsinn. Ég vildi fá slíkar buxur við fallegan bol sem myndi falla vel saman. Bolurinn sem ég valdi er ekkert ósvipaður „gatsby“ fílingnum og fannst mér hann mjög viðeigandi. Þessi ferð mín í Rauða krossinn skildi eftir hlýja minningu í hjartanu. Ég sá svo mikið og mér finnst magnað að geta endurnýtt gamlar flíkur sem eru að koma aftur í tísku á hagkvæman og umhverfisvænan hátt. Það skemmir ekki reynsluna að starfsfólkið er gríðarlega hvetjandi og huggulegt. Reynslan mín var svo jákvæð að ég mun hiklaust nýta mér það að fara þangað aftur og helst með vinkonur mínar í eftirdragi.“

Ég valdi mér flottan vax jakka, svartan bol, svartar gallabuxur og brúna fína kuldaskó í venjulega „outfittið“ mitt.“

„Ég hef lengi leitað mér að dúnúlpu við hæfi, sem mér þykir temmilega „oversized“ en ekki of síð.“

ARNÓR BREKI:

„Klárt mál að ég mun fara oftar að skoða og kaupa mér föt“ ●●Þarna leynast mikið af flottum ódýrum fatnaði „Þetta verkefni sem við fengum að taka þátt í var mjög spennandi og skemmtilegt. Ég var ekki alveg viss um hvað ég væri að koma mér út í og ég hafði ekki hugmynd um það hvort ég myndi finna mér eitthvað af flottum fötum. Ég hafði litlar væntingar en mér brá verulega þegar ég kom á staðinn og sá mikið af flottum fatnaði sem ég bjóst ekki við að væri til. Ég valdi mér flottan vaxjakka, svartan bol, svartar gallabuxur og brúna fína kuldaskó í venjulega „outfittið“ mitt. Það tók mig ekki langan tíma að finna fötin en ég var gríðarlega ánægður með útkomuna og þetta er klárlega fatnaður sem ég myndi ganga í hversdagslega.

Að velja jóladressið var aðeins meira krefjandi en gaman. Það var mikið af flottum jakkafötum í ýmsum stærðum. Eftir dágóða leit fann ég geggjuð kjólföt sem ég gat bara ekki látið vera. Þau pössuðu vel á mig og urðu fyrir valinu. Jóladressið var því samsett af kjólfötum að ofan, svartri skyrtu, vínrauðri slaufu og fann svo þessa fínu „Chelsea boots.“ Ég er virkilega ánægður með það sem ég valdi mér. Þetta var mjög skemmtileg reynsla. Starfsfólkið er alveg yndislegt og virkilega hjálpsamt og vil ég þakka þeim sérstaklega. Það er alveg klárt mál að ég mun fara oftar í Rauða Krossinn að skoða mér og kaupa föt. Þar leynist greinilega mikið af flottum fötum á mjög ódýru verði.“

„Starfsfólkið er alveg yndislegt og virkilega hjálpsamt og vil ég þakka þeim sérstaklega“ Páll Orri Pálsson pop@vf.is


16 - 3 2 8 0 — H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A

Starfsfólk Isavia óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ferðaári. Þökkum kærlega fyrir árið sem er að líða.


26

VÍKURFRÉTTIR

SENDUM ÍBÚUM Í VOGUM BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR

Gleðilega hátíð Við óskum þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum kærlega vinskapin á árinu sem senn er að líða. Við munum vera með lokað frá og með: 23.des - 3.jan 2017. Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári, starfsfólk Hjá Höllu.

Combo bo Kit Lutool Com eins ð a ið tt allt se

17.890

sett

Skrúfvél

fimmtudagur 22. desember 2016

Keflavíkurkirkja ómar öll! Keflavíkurkirkja skartar sínu fegursta þessa aðventuna. Endurbótum á innréttingum kirkjuskipsins er lokið og kirkjan ljómar sem aldrei fyrr. Tónlistin skipar stóran sess í helgihaldinu og hafa allir kórar kirkjunnar látið raust sína hljóma þessa aðventuna. Leikskóla- og grunnskólabörn hafa komið og flutt helgileiki við góðar undirtektir og sungið jólalög. Reykjanesbær var með sína árlegu jólaföstu þar sem öllu starfsfólki bæjarins var boðið til árlegrar „jólaföstu í Keflavíkurkirkju” með tónlist og söng og endaði svo á að fá sér heitt súkkulaði og með því. Með þessari venju sem nær nú áratug aftur í tímann, leggur starfsmannafélag bæjarins til fé í Velferðarsjóð á Suðurnesjum, sem ella hefði verið varið í veisluhöld á aðventunni. Fyrsti sunnudagur í aðventu hófst með hefðbundnu helgihaldi við messu klukkan 11:00 og kom það svo í hlut kórs eldri borgara á Suðurnesjum, Eldeyjarkórsins, að syngja um kvöldið. Rúmlega 60 manns eru í þessari gleðisöngsveit. Annan sunnudag í aðventu var ljósamessa í Keflavíkurkirkju. Fermingarbörn skiptu á milli sín helgitextum og tendruðu ljós eftir hvern lestur. Að kvöldi dags kom það svo í hlut Kórs Keflavíkurkirkju að syngja í endurbótamessu. Fagnað var formlega endurbótum kirkjunnar, þar sem Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir, formaður sóknarnefndar og Páll Bjarnason, hönnuður framkvæmdanna, fluttu ávarp. Kirkjukórinn söng jólasálma og tveir kórfélagar sungu einsöng í „Laudate Dominum“ eftir Mozart og „Ó, helga nótt“ eftir Adams. Þriðji sunnudagur í aðventu hófst með helgistund í kirkjunni en svo tók við jólaball í safnaðarheimilinu þar sem yngri hópur úr „Skapandi starfi“ kom fram. Skapandi starf er verkefni sem hrundið var af stað í fyrra og hefur gefist mjög vel. Markmiðið er að hver og einn einstaklingur læri og þori að vera hann sjálfur í söng og leik. 75 börn á aldrinum 7 til 15 ára eru í þessum hópi. Um kvöldið voru það svo eldri börnin í skapandi starfi sem komu fram ásamt sönghópnum „Vox felix“, eða „Hamingjuröddunum“. Vox felix var stofnaður fyrir fjórum árum fyrir tilstuðlan Sigurðar Grétars Sigurðssonar, þáverandi Útskálaklerks. Hópurinn er samstarfsverkefni allra sjö sókna á Suðurnesjum og hefur vaxið mjög á þessum fjórum árum. Núna skipa 28 manns hópinn, og hafa meðlimir þar að auki stofnað hljómsveit, með bassa, gítar og cajon trommu. Vox felix hefur haft nóg að gera þessa aðventuna og kemur flokkurinn fram, alls tólf sinnum. Framundan í kirkjunni eru svo hátíðarmessur um jól og áramót. Þetta

Barnakór Keflavíkurkirkju.

Eldey, kór eldri borgara.

Kór Keflavíkurkirkju.

Vox Felix, ungmennakór kirknanna.

er sannarlega innihaldsríkur tími þar sem hver og einn ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þrjár messur eru í kirkjunni á aðfangadag: Barnastund klukkan 16:00, hátíðarmessa klukkan 18:00 og svo miðnæturmessa klukkan 23:30. Í miðnæturmessunni, sem ber heitið „Nóttin var sú ágæt ein“ er komin hefð fyrir því að sönghópurinn Kóngarnir syngi. Kóngarnir er söngkvartett skipaður fjórum körlum úr Kór Keflavíkurkirkju. Stundin er látlaus og allt sungið „a-capella“ það er án meðleiks hljóðfæra.

Hátíðarmessa er á jóladag klukkan 14:00, gamlársdag klukkan 18:00 og á nýársdag klukkan 14:00. Óhætt er að segja að Keflavíkurkirkja ómi og ljómi þessa hátíð sem aðrar og horfum við björtum augum til komandi tíma um leið og við byggjum á góðum grunni þjónustu sem nær nú heila öld aftur í tímann og við þreytumst ekki á að rifja upp. Gleðileg jól! Arnór Vilbergsson organisti Keflavíkurkirkju

Almannavarnir loka

Valahnúk vegna risasprungu

Stingsög

i atæk t o n l ö Fj

Kletthálsi 7, Reykjavík Fuglavík 18, Reykjanesbæ

Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

■■Í samráði við Almannavarnir og Reykjanesbæ hefur Valahnúk á Reykjanesi verið lokað fyrir umferð fólks. Stór sprunga við brún Valahnúks hefur stækkað undanfarið og óhjákvæmilega mun sá hluti hrynja úr hnúknum. Varhugavert getur verið að vera nálægt brúninni ef og þegar hrun á sér stað. „Í samráði við almannavarnir og Reykjanesbæ var því tekin sú ákvörðun fyrir síðustu helgi að loka fyrir uppgöngu á Valahnúk. Lokunin gildir þar til annað verður ákveðið. Ég vona að þið sýnið þessari ákvörðun skilning og upplýsið ykkar ferðamenn um hættuna sem fylgir uppgöngu ef þeir taka ekki mark á merkingum á svæðinu,“ segir Eggert Sólberg Jónsson hjá Reykjanes Geopark á vef ferðaþjóna á Reykjanesi á Facebook.


Gleðilega hátíð ljóss og friðar

Starfsfólk HS Orku óskar ykkur birtu og gleði um jólin, orku og farsældar á nýju ári.

www.hsorka.is


markhönnun ehf

Gott og ódýrt fyrir jólin… Hátíðarlambalæri Hátíðarlambalæri marinerað - Goði

1.594

22%

KR KG

Áður: 1.898 kr/kg

Lambahryggur frosinn heill

1.778 KRKG

Áður: 2.279 kr/kg

nýtt í

20% með 6 brauðum

Hátíðarsúpa Humarsölunnar,

Áður: 1.598 kr/pk

1.298 KRpK

Goði Pítubuff

1.278 KRpK

850 ml

nýtt í

Humar er ómissandi á veisluborðið! Humar brauðaður

Humar VIP

500 gr.

1.598 KRpK

millistærð 800 gr.

5.898

KR pK

Áður: 1.598 kr/pk

23%

20%

X-tra Tartalettur

20% Okkar Laufabrauð

Coop Loftkökur

8 stk.

Tylstrup 200 gr.

1.094

KR pK

Áður: 1.367 kr/pk

10 stk

199 KRpK

Áður: 259 kr/pk

199 KRpK

Áður: 249 kr/pk

Tilboðin gilda 21 . – 24. desember 2016

Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

Mjó


Opnun verslana yfir hátíðarnar

…

Skrautlegu jólapeysurnar

25%

2.249 kr. Áður: 2.998 kr/stk

Mackintosh

Eplaskífur Coronet 20 stk 560 gr.

299

KR pK

Áður: 398 kr/pk

25%

1.999

KR pK

699 KRpK

KR pK

2 tegundir - 1100 ml. KR pK

Áður: 1.598 kr/pk

Only Jólakúlur Súkkulaði 400 gr.

498

34%

Áður: 998 kr/pk

Áður: 2.398 kr/pk

Daisy Ísterta

1.398

200 gr.

750 gr.

1,3 kg.

1.798

Lindor Mjólkursúkkulaði

Celebrations

KR pK

www.netto.is

Annas Piparkökuhús 300 gr.

395 KRSTK

Áður: 599 kr/pk

Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hafnarfjörður · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss


30

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016 Kvennakór Suðurnesja söng undir stjórn Dagnýjar Þ. Jónsdóttur. VF-myndir/pket.

Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða. Gleðilegt nýtt bílaár!

Jólatónleikar Kvennakórs Suðurnesja

■■Húsfyllir var á jólatónleikum Kvennakórs Suðurnesja í Ytri-Njarðvíkurkirkju á dögunum. Gestir á tónleikunum voru ungmennakórinn Vox Felix og barnakór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Kórarnir sungu jólalög og þá flutti séra Petrína Mjöll Jóhannesdóttir hugvekju. Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er Dagný Þórunn Jónsdóttir. Það er óhætt að segja að jólaandinn hafi svifið yfir vötnum í Njarðvíkurkirkju þetta kvöld sem var hátíðlegt. Barnakór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar söng nokkur lög undir stjórn Birtu Rósar Sigurjónsdóttur.

Birta Rós Arnórsdóttir söng einsöng með Kvennakórnum.

NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA

16 20 16 20 16 20 16 20

SÍÐASTI ÚTDRÁTTUR

tta rfrétta Víkurfré leikurrVíku miðaleiku Skafmiða tta rfrétta Skaf Víkurfré jum rnes leikur Suðu ár miða lana Skaf jum verslana Víku rnes ogmiða Suðu leiku áSuðu jum vers Skaf rnes og á lana og vers rnesjum og verslana á Suðu

24. DESEMBER ðskipti á árinu sem er að líða.

SKÖTUHLAÐBORÐ Í Officeraklúbbnum 23. desember frá 11.30 til 14.00

Verð kr. 3.700,Allir velkomnir

Borðapantanir í síma 421-4797

FORRÉTTIR

Síldarsalöt, þrjár tegundir Reyktur lax með piparótarsósu Grafinn lax með sinnepssósu Sjávarréttasalat Heitreyktur lax með kornasinnepshjúp Villibráðarpaté

AÐALRÉTTIR

Kæst skata og tindabikkja Skötustappa Siginn fiskur Plokkfiskur Saltfiskur Hangikjöt með uppstúf

MEÐLÆTI

Hnoðmör, hamsatólg, lauksmjör, hrásalat, laufabrauð, rúgbrauð, kartöflusalat, grænar baunir, rauðkál

EFTIRRÉTTUR Ris a la mande


Gleðileg jól, þökkum fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða og

Gleðilegt nýtt ár

Holtsgötu 56, 260 Reykjanesbæ // 421 2000


32

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

Val á íþróttafólki ársins 2016 Ungmennafélag Njarðvíkur

Verðlaunuð verða íþróttakona og íþróttakarl hjá hverri deild og síðan þau sem hljóta heiðurinn að vera íþróttafólk UMFN 2016. Hófið verður haldið í Íþróttahúsinu í Njarðvík, fundarsal UMFN, þriðjudaginn 27. desember nk. og hefst kl. 17:30. Við hvetjum alla til að mæta og samfagna okkar frábæra íþróttafólki. Aðalstjórn UMFN

29 nemendur útskrifast frá Fisktækniskóla Íslands Falleg grein á leiðið

1.990 kr

Fisktækniskóli Íslands í Grindavík útskrifaði 29 nemendur frá Fisktækniskóla Íslands nú í desember. Í hópnum voru tíu fisktæknar, ellefu gæðastjórar og átta sem voru útskrifaðir sem Marel-vinnslutæknar. Þetta var í þriðja skipti sem skólinn útskrifar nemendur frá því að námskrá skólans var formlega samþykkt árið 2012 og hafa nú alls um 90 nemendur útskrifast frá skólanum. Auk kennslu til grunnnáms á framhaldsskólastigi og sérnáms hefur námskeiðahald verið stór þáttur í starfsemi skólans á árinu og hafa um 800 starfandi einstaklingar úr sjávarútvegi, fiskeldi og vinnslum af öllu landinu, sótt námskeið á vegum skólans. Frá stofnun skólans fyrir nær átta árum hefur verið lögð mikil áhersla á að auk kennslu í Grindavík yrði nám í fisk-

tækni í boði sem víðast á landinu. Að sögn Ólafs Jón Arnbjörnssonar, skólameistara Fisktækniskóla Íslands hafur það markmið náðst enda stunduðu um 60 nemendur nám á þremur stöðum á landinu í góðu samstarfi við framhaldsskóla, símenntunarmiðstöðvar og hagsmunaaðila í sjávarútvegi á hverjum stað nú á haustönn.

Arnar og Björn afhentu Önnu Valdísi styrk frá Kiwanisklúbbnum.

Arnar og Björn með Þórunni frá Velferðarsjóði Suðurnesja.

Nú stendur yfir innritun á vorönn og auk tveggja ára grunnáms í Fisktækni og sérnáms í Marel-vinnslutækni og Gæðastjórnun verður í fyrsta skipti boðið upp á nýtt eins árs sérnám í Fiskeldi. Námið er sniðið fyrir þessa vaxandi iðngrein á Íslandi og er unnið í samstarfi við Háskólann á Hólum.

Ekta leðurhanskar fyrir dömur

3.900 kr Verzlun Fjölskylduhjálpar Íslands

Baldursgötu 14, Reykjanesbæ Iðufelli 14, Reykjavík Opið alla virka daga milli 13-18

Kiwanismenn afhentu styrki ■■Kiwanisklúbburinn Keilir er með sína árlegu jólatréssölu í Húsasmiðjunni. Auk trjáa eru í boði leiðiskrossar og skreyttar greinar. Þetta er stærsta fjáröflun Keilis og rennur allur ágóði til líknarmála. Það er hluti af jólahefð hjá fjölmörgum fjölskyldum á Suðurnesjum að kaupa

jólatré af Kiwanisklúbbnum og færir hann þeim sínar bestu þakkir fyrir, segir í tilkynningu frá klúbbnum. Í upphafi sölunnar voru afhentir styrkir til Velferðarsjóðs og Fjölskylduhjálpar líkt og undanfarin ár, Skúli Magnússon forseti Keilis og Arnar Ingólfsson formaður styrktar-

Margrét Arna Eggertsdóttir og Kjartan Már Kjartansson við undirritun samnings um akstursþjónustu fyrir fólk með fötlun. Mynd af vef Reykjanesbæjar.

Ferðaþjónusta Reykjaness áfram með akstur fólks með fötlun ■■Ferðaþjónusta Reykjaness mun áfram sinna akstri fólks með fötlun í Reykjanesbæ. Skrifað var undir samning þess efnis á dögunum. Samningurinn var gerður í kjölfar útboðs þar sem tvö fyrirtæki sendu inn tilboð. Samningurinn er til fimm ára og tekur gildi í apríl á næsta ári. Ferðaþjónusta Reykjaness hefur sinnt þjónustunni undanfarin ár og mun halda sama fyrirkomulagi á þjónustunni og verið hefur. Markmið ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk í Reykjanesbæ er að gera fólki kleift að stunda vinnu, nám eða sækja sér þjónustu á sérhæfðar þjónustustofnanir.

Óska Suðurnesjamönnum

gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári Kærar þakkir fyrir stuðninginn á liðnum árum. Lifið heil, Páll Valur Björnsson

nefndar sáu um afhendingu styrkjanna. Þórunn Þórisdóttir tók við styrknum fyrir hönd Velferðarsjóðs og Anna Valdís Jónsdóttir fyrir hönd Fjölskylduhjálpar. Anna Valdis notaði þetta tækifæri og afhendi Kiwanisklúbbnum viðurkenningu Fjölskylduhjálpar, Hjálparengil 2016.


ÞAÐ ERU ALLIR PARTUR AF OMNIS FJÖLSKYLDUNNI HAFÐU ÞAÐ GOTT UM JÓLIN

Ipad Air 2i 32GB WiF

66.990,-

Lenovo

Samsungá

fr snjalltæki ,29.900

”

IT Tab 3-7

14.990,-

Lenovo

”

,1 Yoga 310

tölva

10” spjald

39.990,-

Fartölvur frá aðeins

49.900,-

Blutooth hátalarar

HAFNARGATA 40 - S. 422 2200

Úrvalið af tölvu og fylgihlutum eru í Omnis

REYKJANESBÆ


34

VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

Osteopatar alltaf með svör

●●Reynir á skipulag og sjálfsaga ●●Nóg að gera að námi loknu ●●Draumurinn að vinna með íþróttamönnum í fremstu röð, ● segir Unnar Már Unnarsson. Suðurnesjamenn fjölmennir í Svíðþjóð. Páll Orri Pálsson pop@vf.is

Unnar Már Unnarsson er 21 árs Keflvíkingur sem stundar nám við skandinavíska Osteopataskólann í Svíþjóð og er að læra að verða osteopati. Hann hefur alltaf haft mikinn áhuga á líkamanum og heilsu en þegar hann fór til Péturs Péturssonar heitins sem hjálpaði honum í gegnum meiðsli kviknaði áhuginn á náminu. Fjórir aðrir Suðurnesjamenn eru í sama námi í skólanum. Námið fer fram eina viku í mánuði í Svíþjóð í 5 ár en samhliða því sinnir hann heimanámi á Íslandi. „Ég hef alltaf haft ótrúlega mikinn áhuga á líkamanum, líkamsrækt og heilsu yfir höfuð og svo hefur maður náttúrlega verið að spila fótbolta frá því maður byrjaði að standa í lappirnar, og þeir sem eru í boltanum vita vel að því geta fylgt meiðsli. Ég var svo ótrúlega heppinn að vera einn af þeim sem fékk að kynnast hinum elskulega Pétri Péturssyni sem við könnumst öll við af Suðurnesjum og hann hjálpaði mér rosalega mikið þegar ég var að glíma við meiðsli. Það var þá þar sem ég fékk mikinn áhuga á að verða osteopati, þegar ég sá að hann hafði nánast alltaf svör við öllu. Hann náði einhvern veginn alltaf að koma mér á völlinn aftur með ótrúlegustu aðferðum sem er einmitt það sem osteopatar hafa oftast fram yfir aðra í þessum bransa, mjög mikið af aðferðum til að laga fólk. Ég hafði það alltaf á bak við eyrað að ég vildi verða osteopati í framtíðinni þar sem ég hafði mikinn áhuga en á þessum tíma var ég bara ennþá í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Ég lét svo loksins verða af því eftir að hafa tekið eina önn í viðskiptafræði í Flórída í byrjun árs þar sem ég var engan veginn að fíla mig,“ segir Unnar.

Það reynir mikið á skipulag og sjálfsaga í þessu námi þar sem stór hluti þess fer fram á Íslandi í heimanámi en mastersnámið tekur fimm ár og saman stendur af níu önnum. Námið er nokkuð dýrt en önnin kostar eina milljón króna. Með Unnari í náminu eru fjórir ungir Suðurnesjamenn. „Það er ótrúlegt að segja frá því en við sóttum öll um þetta nám án þess að vita hvert af öðru. Það er þvílík tilviljun að það séu eingöngu fjórir íslendingar í þessum bekk sem við erum í og að við séum öll frá Suðurnesjum og þekkjumst mjög vel, sem er náttúrlega bara stór plús.“ Unnar býr hjá keflvíska knattspyrnumanninum Elíasi Má Ómarssyni, leikmanni IFK Gautaborg, þegar hann er úti en aðrir leigja sér íbúð.

vöðvar og beinin vinna saman í að halda okkur uppi og hreyfa okkur. Það er allt kennt á latínu eins og oftast er gert í anatómíu. Þar þarf að læra rosalega djúpt inn á líkamann og öll kerfi í honum til að verða sem bestur og geta unnið vel með höndunum og hjálpað fólki. Það virkar vel að vera í verklegum æfingum og bóklegum saman sem gerir þetta ótrúlega skemmtilegt. Það hjálpar mikið til þegar við erum að fara yfir þungt efni að komast í smá verklegar æfingar inn á milli, það er bara algjörlega nauðsynlegt,“ segir Unnar en honum finnst skemmtilegast að ‘palpate-a’, en þá æfa nemendur sig að finna vöðva á hver öðrum.

Unnar og Emil á svokölluðum beinalager.

Er erfitt að fá starf sem osteopati á Íslandi? „Osteopatar starfa sjálfstætt eftir að þeir útskrifast, svo að svarið er nei, það er ekki erfitt að fá starf þar sem flestir stofna bara sitt eigið fyrirtæki og vinna sjálfstætt eða með öðrum osteopötum. Það eru náttúrlega ótrúlega fáir osteopatar á Íslandi og tel ég mikla þörf fyrir fleiri svo ég held að það verði nóg að gera hjá manni að loknu námi. Draumastarfið mitt innan osteopatíunnar væri að vinna með íþróttamönnum í fremstu röð. Ég hef sjálfur verið í íþróttum allt mitt líf og held að osteopatar eigi eftir að koma enn meira inn í íþróttirnar á næstunni og þá sérstaklega hjá klúbbum og íþróttamönnum sem spila í efstu deildum.“ Hann segir það skemmtilegasta við námið að æfa sig í höndunum. Það er mjög stór hluti af starfinu. Anatómía er eftirlætis fagið þar sem hann lærir um alla vöðva í líkamanum, hvar þeir festast og hvernig þeir virka. „Við lærum svo öll bein og hvernig

Unnar að skoða hreyfigetuna á milli hryggjaliða í viktori.

Sóley að athuga með vöðvann Psoas Major hja Unnari og er að losa um spennu þar.


Gleymdirðu einhverju?

HOLLUR SKYNDIBITI Opnunartími Fitjum

Þú getur andað rólega. Í 10–11, Fitjum finnur

24. des. Opið til 17

þú allt sem gleymdist að kaupa í jólastressinu.

25. des. Lokað

Við vitum öll hvernig þetta er.

26. des. Opið 24/7

Gleðileg jól, takk fyrir viðskiptin á árinu

31. des. Opið 24/7

og hafðu það sem best yfir hátíðarnar.

1. jan.

Opið 24/7

Hringir inn jólin Opnunartími Fitjum

23. des

10–22

26. des

Lokað

23. des 7–22

26. des 7–22

24. des

Lokað

31. des

Lokað

24. des 7–16

31. des

7–16

25. des

Lokað

1. jan

Lokað

25. des Lokað

1. jan

10–22


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook