36
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. desember 2016
ÁRATUGUR FRÁ STRANDI WILSON MUUGA Í HVALSNESFJÖRU VIÐ SANDGERÐI
STÍMDI BEINT TIL LANDS Á FULLRI FERÐ Áratugur er liðinn síðan flutningaskipið Wilson Muuga strandaði í Hvalsnesfjöru við Sandgerði. Strandið átti sér stað seint um nótt þann 19. desember 2006. Fjórtán manna áhöfn var á flutningaskipinu. Í aðdraganda björgunaraðgerða fórst bátsmaður af léttabáti frá danska varðskipinu Triton. Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Flutningaskipið Wilson Muuga stímdi beint til lands á fullri ferð án þess að áhöfnina grunaði hvað framundan væri. Þetta kom fram í sjóprófum sem fram fóru í Héraðsdómi Reykjaness vegna strandsins. Kom í ljós að bæði sjálfsstýring skipsins og svokallaður gírókompás biluðu. Gírókompásinn sýndi stefnu í hásuður þótt skipið hefði í raun hrakist af leið vegna hliðarvinds. Í sjóprófunum kom fram að gert hefði verið við gírókompásinn í byrjun desember vegna bilunar. Yfirstýrimaður skipsins, sem var við stjórnvölinn þegar skipið strandaði, vissi hins vegar ekki af viðgerðinni. Beiðni um dráttarbát barst frá Wilson Muuga seint um nótt. Í fyrstu var ekki vitað hvar skipið væri strandað en björgunarskip voru send út bæði frá Sandgerði og Grindavík. Skipið fannst svo langt uppi í fjöru við Hvalsneskirkju. Viðbragðsaðilar settu upp aðstöðu við Hvalsneskirkju en þaðan sást vel yfir strandstaðinn. Danska varðskipið Triton heyrði hjálparbeiðnina frá Wilson Muuga og bauð fram aðstoð sína. Var léttabátur sjósettur frá skipinu með átta mönnum. Mjög þung alda var úti fyrir Sandgerði, ölduhæðin margir metrar og aðstæður mjög erfiðar. Léttabátnum hvolfdi í brimgarðinum ekki langt frá strandstað. Við þetta slys breyttist atburðarásin. Bátsmennirnir voru hætt komnir í brimsköflunum þegar bát þeirra hvofldi. Mannskapurinn var mjög vel þjálfaður og höfðu þeir náð að krækja sig saman þegar áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar fann þá. Einn þeirra drukknaði en gat hafði komið á björgunarbúning hans en hinum var bjargað með ævintýralegum hætti úr öldum sem voru á hæð við þriggja hæða hús og vann þyrlusveit Landshelgisgæslunnar þar mikið afrek. Allar björgunarsveitir á Suðurnesjum höfðu á þessum tímapunkti
verið kallaðar út og þá var óskað eftir aðstoð björgunarsveita af höfuðborgarsvæðinu með mesta forgangi. Hluti björgunarliðsins vann að aðgerðum við strandstað Wilson Muuga á meðan aðrir tóku þátt í leit að danska sjóliðanum. Samskiptin við skipstjóra Wilson Muuga gengu erfiðlega framan af. Hann vildi ekki láta bjarga áhöfninni frá borði en björgunarsveitir höfðu frá því í birtingu unnið að því að koma línu um borð í skipið. Einnig voru þyrlur Landhelgisgæslunnar tiltækar til að hífa áhöfnina í land.
Skipstjórinn vildi hins vegar bara fá dráttarbát til að draga skipið á flot og halda ferðinni til Rússlands áfram. Hann gerði sér enga grein fyrir aðstæðum og hversu langt upp í fjöruna skipið var komið. Skipbrotsmenn voru þó fluttir í land þegar líða tók á daginn og síðdegis þann 19. desember hafði öll áhöfnin verið flutt í land með þyrlum Landhelgisgæslunnar. Þegar Wilson Muuga strandaði aðfaranótt 19. desember 2006 voru aðstæður mjög slæmar á strandstað, vaxandi straumur, áhlaðandi og mikill vindur. Spáð var áframhaldandi
Léttabát af danska varðskipinu Triton rak upp í fjöru á Hvalsnesi eftir að hafa hvolft í brimrótinu þar sem einn bátsverji fórst. roki næstu daga. Um borð í skipinu voru 145 tonn af svartolíu og 33 tonn af annarri olíu. Var í upphafi óttast að olía úr skipinu gæti komist út í umhverfið og valdið mengunarslysi og var strax hafist handa við að gera ráðstafanir til að fjarlægja olíuna úr skipinu. Tókust þær aðgerðir giftusamlega og lítil olía komst út í umhverfið og olli hverfandi skaða. Sólarhring eftir strandið töldu menn litlar líkur á að hægt yrði að bjarga Wilson Muuga af strandstað. Gunnar Stefánsson hjá Landsbjörgu sagði í samtali við Víkurfréttir sólarhring eftir strandið að það stórsæi á botni
skipsins eftir að hafa lamist til í óveðrinu sólarhringinn á undan. Talsverður leki var kominn í skipið, í lestar og víðar. Slæm veðurspá var yfirvofandi og því ljóst að erfitt yrði að koma fyrir búnaði til að dæla sjó úr skipinu, sagði í frétt daginn eftir strandið. Þá var búið að leggja veg að strandstað strax daginn eftir strand skipsins til að auðvelda aðkomu að fjörunni en um 400 metrar voru frá fjörukambi að skipinu. Gunnar Stefánsson sagði á vef Víkurfrétta líklegt að að nýtt Víkartindsmál væri í uppsiglingu. Skipið snérist mikið á strandstaðnum fyrsta sólarhringinn. Þá voru allir botntankar skipsins rifnir og hætta var á að skipið liðaðist í sundur en sprungur voru komnar í plötumót. Björgunarsveitarfólk á Suðurnesjum var kallað út á aðfangadag 2006 til að leita að olíublautum fugli nærri strandstað en vart hafði orðið við olíuleka frá skipinu.
Mikill viðbúnaður björgunarliðs á fjörukambinum við Hvalsnes.
„Bæjarráð Sandgerðisbæjar telur algjört forgangsatriði að olíu úr Wilson Muuga verði hið fyrsta komið á land til að koma í veg fyrir umhverfisslys á fjörum og við strendur bæjarfélagsins af völdum olíumengunar. Bæjarráð vill hins vegar taka fram að gæta þarf fyllsta öryggis á strandstað og að starfsmönnum verði ekki stefnt í voða í ljósi þess að nú þegar hefur einn látist
(framhald í næstu opnu)
38
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. desember 2016
Gunnar Þór Hallgrímsson fuglafræðingur með olíublautan æðarfugl. Víkurfréttamyndir: Ellert Grétarsson, Þorgils Jónsson, Páll Ketilsson og Hilmar Bragi Bárðarson
Wilson Muuga á strandstað í ársbyrjun 2007. Loðnuflotinn skammt undan.
Útkallið breyttist fljótt þegar léttabáturinn frá Triton fórst í briminu og leita þurfti af átta bátsmönnum. Einn þeirra fórst. við björgunarstörf á svæðinu. Bæjarráð hefur því fullan skilning á að taka þurfi mið af aðstæðum,“ segir í ályktun sem samþykkt var á aðfangadag 2006. „Bæjarráð gerir því ekki athugasemd við þá ákvörðun sérfræðinga á vegum Umhverfisstofnunar að vinna á strandstað verði takmörkuð á meðan veður og straumar ógna öryggi starfsmanna á þeirra vegum. Bæjarráð telur hins vegar rétt að leggja áherslu á þá skoðun bæjaryfirvalda að mikilvægt er að vinna við dælingu olíunnar á land hefjist um leið og aðstæður til þess skapast og treystir sérfræðingum Umhverfisstofnunar og þeim sem á hennar vegum starfa til að tryggja að svo verði. Af gefnu tilefni er einnig rétt að taka það fram að bæjaryfirvöld eða starfsmenn Sandgerðisbæjar taka engan þátt í ákvarðanatöku eða framkvæmd aðgerða á strandstað. Umhverfisráð bæjarfélagsins, bæjarráð og bæjarstarfsmenn eru til reiðu og munu bregðast við ef og þegar eftir því verður leitað undir stjórn Umhverfisstofnunar og í samráði
við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja,“ sagði jafnframt í ályktuninni. Talsvert var tekist á um Wilson Muuga í ársbyrjun 2007. Bæjaryfirvöld í Sandgerði hugðust leita réttar síns fyrir dómstólum ef eigendur Wilsons Muuga færu ekki að vinna í því að fjarlægja skipið úr Hvalsnesfjöru þar sem það hafði setið í mánuð. Vildu bæjaryfirvöld meina að útgerð skipsins væri að tefja brottflutning skipsins. Starfsmenn Náttúrufræðistofu Reykjaness fundu talsverða olíumengun í fjörunni við Wilson Muuga síðdegis þann 19. febrúar 2007 þegar þeir gengu fjörur á Hvalsnesi. „Hugsanlegt er að þar sé að finna örsök þeirrar olíumengunar sem hundruð sjófugla lentu í nú um helgina og sést hafa meðfram ströndum við Garðskaga. Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja hefur verið gert viðvart og munu fulltrúar þess fara á staðinn í fyrramálið og meta aðstæður. Að sögn starfsmanns hjá Náttúrufræðistofu virðist nokkur olía hafa borist upp á land og sest í tjarnir ofan við
fjörukambinn. Starfsmaður Náttúrufræðistofu Reykjaness treysti sér þó ekki til að meta umfang mengunarinnar, það yrði að metast af þeim aðilum sem til þess hefðu sérþekkingu,“ sagði í frétt á vef Víkurfrétta. Fjölmennur hópur á vegum Bláa hersins var kallaður til. Hann hreinsaði meðal annars olíublautt þang úr Gerðakotstjörn. Voru um 25 tonn af olíublautu þangi flutt á brott.
25 tonn af olíublauti þangi voru hreinsuð upp af svæðinu.
Flogið yfir strandstað með TF-LÍF.
Í mars 2007 tilkynnti umhverfisráðherra að samkomulag hefði náðst við eigendur skipsins um að fjarlægja það af strandstað. Þau voru svo fölskvalaus fagnaðarlætin í fjörunni við strandstað Wilson Muuga þann 17. apríl 2007 þegar skipið náðist á flot um klukkan hálf sex síðdegis. „Enda voru menn búnir að leggja nótt við nýtan dag síðustu sólarhringana við undirbúning björgunarinnar“. Það var síðan í byrjun júní sem skipið hélt af landi brott áleiðis til Líbanon. Þar átti að gera skipið upp. Skipið fékk nafnið Karim.
3700 tonna skipið er risastórt í fjörunni í samanburði við jeppann og fólkið.
Dráttarbátur togar í Wilson Muuga í Hvalsnesfjöru 17. apríl 2007.
Það var fagnað þegar skipið náðist loks á flot í apríl 2007.
Jólakveðja frá starfsfólki Bláa Lónsins
40
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. desember 2016
Óska öllum Suðurnesjamönnum gleðilegra hátíðar og velferðar á nýju ári. Opnunartíminn yfir hátíðarnar: Virkadaga kl. 7:00 - 17:30. Laugardaga kl. 8:00 - 16:00 og sunnudaga kl. 9:00 - 16:00. Þorláksmessa kl. 7:00 - 17:30. Aðfangadagur jóla kl. 8:00 - 13:00 . Lokað verður 25. og 26. desember. Sigurjónsbakarí // Hólmgarður 2 // 230 Reykjanesbæ // Sími 421-5255
Ef þú lendir í tjóni þá sér Bílnet um málin ! Hjá Bílneti færð þú bestu viðgerð og þjónustu sem völ er á. Bílnet er gæðavottað verkstæði og með 5 stjörnur frá Sjóvá. Bílnet leggur áherslu á fagleg og snögg vinnubrögð. Við notum einungis vottað hágæða lakk frá Du Pont í samstarfi við Poulsen.
Gleðileg jól og komandi ár ár Gleðileg jól farsælt og farsælt komandi ÞökkumÞökkum viðskiptin á árinu semsemeru viðskiptin á árinu eruað að líða líða Þjónusta í boði hjá Bílneti
Bílasprautun - Bílaréttingar - Tjónaskoðun - Plastviðgerðir Bílrúðuskipti - Mössun - Sprautulökkun
• Brekkustíg 38 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 • • Fitjabraut 30 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 • Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti Bílnet ehf. - 420 0020 - Brekkustíg 38 - 260 Reykjanesbæ - www.bilnet.is
Jólaspjall:
Karaoke græjan þótti mikið sport Hafdís Ásta Guðmundsdóttir, snyrtifræðingur er búsett í Garðinum ásamt fjölskyldu sinni, en þar er hún fædd og uppalin. Henni finnst jólin koma með Baggalúts-tónleikum ár hvert en er að öðru leyti ekki vanaföst yfir hátíðarnar. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Það koma náttúrulega ekki jól nema maður horfi á the Holiday. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Við sendum jólakort fyrstu tvö jólin eftir að eldri strákurinn okkar fæddist en svo er ég því miður sek um að hafa ekki nennt ekki að standa í þessum jólakortum síðustu tvö ár og frekar skellt í eina jólakveðju á Facebook. Stefni samt á að senda jólakort á næsta ári.. ef ég nenni. Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Nei er alls ekki vanaföst um jólin. Eina sem mér dettur í hug er að við systkinin höfum alltaf opnað pakkana frá hvort öðru fyrir matinn á aðfangadag en annars er ég bara nokkuð slök með allt annað. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Hef fengið alveg ótrúlega margar fallegar gjafir en eftirminnilegasta jólagjöfin er líklega karaoke græjan sem ég fékk frá mömmu og pabba þegar ég var yngri. Get ekki sungið fyrir fimmaur og er líklega falskari en flestir á Íslandi en þetta var svaka sport og var mikið notað, ætli mamma og pabbi hafi ekki fljótlega séð eftir þessari gjöf. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Eitt sem ég man vel eftir er þegar afi Pétur datt á aðfangadagskvöld niður þessar heilu tvær tröppur sem liggja niður í stofu heima hjá foreldrum mínum og lenti ofan á Knúti bróður
sem þá var tveggja ára og sat í sínu mesta sakleysi á nýju snjóþotunni sinni. Þeir meiddust nú hvorugir sem betur fer en gamli var eðlilega alveg miður sín yfir þessu, greyið. Hvað er í matinn á aðfangadag? Hamborgarhryggur, brúnaðar kartöflur og meðlæti. Svo er alltaf Toblerone ís í eftirrétt. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Mér finnst jólin ekki vera komin nema ég fari á Baggalúts-tónleika. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Við vorum úti á Tenerife síðustu jól og áramót, ég ásamt einum bumbubúa, Danni kærastinn minn, strákurinn okkar Eyþór, mamma, pabbi, Sveinlaug systir, Davíð mágur minn og börnin þeirra Hafþór og Elísabet. Svo hitti svo skemmtilega á að tengdaforeldrar mínir voru líka úti á Tene á sama tíma. Okkur fannst rosa notalegt að vera úti um jólin og myndum alveg pottþétt vilja gera það aftur. Allt öðruvísi jól auðvitað en skemmtilegt samt að upplifa svona öðruvísi jól einu sinni. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Já, ég á tvö uppáhalds jólaskraut sem strákurinn minn föndraði í leikskólanum. Hvernig verð þú jóladegi? Ég fer með fjölskyldunni minni í jólaboð bæði til mömmu og pabba og svo til tengdó seinna um daginn. Svo höfum við það bara kósý saman um kvöldið.
ljósmynd rax
GLEÐILEG JÓL Eimskipafélag Íslands óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir viðskiptin á árinu. Á þessum árstíma kemur dagatal Eimskips ávallt út. Myndirnar sem prýða dagatalið fyrir árið 2017 eru teknar af RAX, Ragnari Axelssyni ljósmyndara. Hægt er að nálgast dagatöl á afgreiðslustöðum Eimskips um land allt.
Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | 525 7000 | eimskip.is
42
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. desember 2016
Hefur hitt nokkra jólasveina Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, heldur enn í þann sið að senda jólakort en þeim hefur þó fækkað með tilkomu Facebook. Ein ef eftirminnilegri jólagjöfum sem hún hefur fengið er uppblásið Barbie sófasett og hún segir að jólin komi þegar jólaklukkurnar klingi í „Gufu“ Ríkisútvarpsins klukkan sex á aðfangadag. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Love Actually er mitt uppáhald. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Ég held enn í þann sið að senda jólakort. Þeim hefur þó fækkað með árunum, þar sem maður er í góðu sambandi við vini og ættingja á Facebook. Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf yfir hátíðirnar? Við hjónin höfum haft það fyrir sið að gera eitthvað með börnum og tengdabörnum um jólin. Hvort sem það er að fara út að borða saman eða bara í bíó. Sími 420 2500 | www.skolamatur.is Skólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær
Sendum Suðurnesjamönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Af jólagjöfum sem ég fékk sem barn stendur upp úr uppblásið Barbie sófasett og svefnherbergishúsgögn fyrir Sindy sem ég fékk frá eldri systkinum mínum. Þetta hafði verið á óskalistanum mínum allt árið. Sérstaklega sófasettið fyrir Barbie. Það sem stendur upp úr seinni árin er hringur sem eiginmaðurinn gaf mér ein jólin fyrir ansi mörgum árum. Við vorum nýlega byrjuð að búa og engu eytt. Við höfðum ákveðið að sleppa jólagjöfum til hvors annars þetta árið en svo beið eftir mér óvænt jólagjöf undir jólatrénu. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Jólabarnaefnið í sjónvarpinu allan daginn á aðfangadag, það var nú eitthvað góðmeti sem maður var ekki vanur. Þegar ég var barn (ekki svo langt síðan) var Stundin okkar á sunnudögum það eina sem var í boði.
Nú, svo fékk maður nammi allan daginn eins og maður gat í sig látið. Mér fannst líka nauðsynlegt að öll systkinin mín sem voru flutt að heiman kæmu í mat á aðfangadagskvöld til foreldra okkar, fannst ómögulegt að við Kristín systir værum bara tvær með gamla settinu. Eldri systkini mín voru auðvitað komin með börn og tóku því ekki alveg eins vel í hugmyndir mínar. Hvað er í matinn á aðfangadag? Eiginmaðurinn sér um að grilla humar í forrétt, við erum með hamborgarahrygg í aðalrétt. Eftirrétturinn samanstendur af ís og heitri snickersíssósu. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Ég ólst upp við það að setjast niður við matarborðið þegar að kirkjuklukkurnar hringja inn jólin á Gufunni klukkan 18:00. Ég hef reynt að halda í þennan sið og þó að ég sé ekkert sérstaklega trúrækin eru jólin komin þegar ég heyri í kirkjuklukkunum í útvarpinu. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Ég hef aldrei verið erlendis um jólin og gæti ekki hugsað mér það eins og staðan er núna. En maður á aldrei að segja aldrei og ef það myndi gerast, yrði ég að hafa alla fjölskylduna með mér! Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Þetta var að sjálfsögu mikið áfall. Við erum að tala um mikið leyndarmál sem var upplýst. Ég neitaði algerlega að horfast í augu við leyndamál sem lak út í Grunnskólanum í Njarðvík.
Seinni árin hef ég svo komist að því að þetta er ekki alveg svona svart/hvítt. Ég hef nefnilega hitt nokkra jólasveina og segi því að þeir eru til. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Uppáhalds jólaskrautið mitt er jólaskraut sem börnin mín hafa gefið okkur hjónunum. Aníta, dóttir okkar, hefur gefið okkur jólakúlur á tréð í jólagjöf undanfarin ár, sem ég held mikið upp á. Svo er það jólaengill úr gleri sem sonur okkar, hann Aron, gaf okkur eitt árið, hann var ekki nema 7 ára. Hann hafði safnað peningum fyrir gjöfinni og fór og keypti hana sjálfur. Á leiðinni heim rann þetta eitthvað úr höndunum á honum og engillinn brotnaði. Hann fór því aftur í búðina og ætlaði að kaupa annan en afgreiðslukonan ákvað að gefna honum bara annan engil. Þessa sögu sagði hann mér þegar ég opnaði pakkann og því finnst mér þessi gjöf innihalda sannan jólaanda. Hvernig verð þú jóladegi? Þetta er dagurinn þegar maður borðar allan daginn og reynir að leggja sig á milli. Við höfum hitt fjölskylduna mína í hádegismat og svo hittist fjölskylda eiginmannsins um kvöldmatarleytið. Það er stundum gripið í borðspil á jóladagskvöld eða bara eytt kvöldinu í gott spjall. Mér finnst þetta dýrmætur tími og maður á að muna að njóta hans vel. Samveran er sennilega eitt það besta sem hægt er að óska sér í jólagjöf. Ég sendi mínar bestu jólakveðjur til allra íbúa á Suðurnesjum. Megi nýja árið færa okkur öllum birtu og yl.
Sendum félagsmönnum og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum samstarf á árinu sem er að líða.
H
F
IÐAVÖLLUM 6 - 230 KEFLAVÍK - SÍMI 421 4700 - FAX 421 3320
Þökkum fyrir viðskiptin á árinu
&
óskum öllum Suðurnesjamönnum
gleðilegrar hátíðar Ísbúð - Grill - Pizza
Hafnargötu 6a, 230 Reykjanesbæ // Sími 421-1544.
44
VÍKURFRÉTTIR
Þúsund manns á
■■Fimleikadeild Keflavíkur hélt á dögunum stórglæsilega jólasýningu. Allir iðkendur deildarinnar 5 ára og eldri tóku þátt í sýningunni. Yfir þúsund manns komu á glæsilega jólasýningu Fimleikadeildar Keflavíkur nú á aðventunni. Þema sýningarinnar var eftir hinni sívinsælu teiknimynd „Frozen.“ Höfundar sýningarinnar voru þær Eva Hrund Gunnarsdóttir og Jóhanna Runólfsdóttir. Í fyrsta skipti tilkynnti fimleikadeildin á jólasýningu hverjir hlutu titilinn Fimleikakona ársins 2016 og Fimleikamaður ársins 2016. Í ár hlutu titilinn Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman og Atli Viktor Björnsson.
VF-myndir/Páll Orri Pálsson.
fimmtudagur 22. desember 2016
jólafimleikum
fimmtudagur 22. desember 2016
VÍKURFRÉTTIR
45
Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman og Atli Viktor Björnsson, fimleikafólk ársins 2016.
46
VÍKURFRÉTTIR
Litskrúðug jólasýning
fimmtudagur 22. desember 2016
BRYN
■■Árleg jólasýning BRYN ballett akademíunnar, Listdansskóla Reykjanesbæjar, var haldin í húsakynnum skólans á dögunum. Á sýningunni sýndu nemendur skólans hvað þeir hafa verið að fást við í vetur. Sýndur var ballett, nútímadans og alls konar dansstílar og atriði. Meðfylgjandi myndir fengum við sendar frá dansskólanum en þær voru teknar á jólasýningunni.
OPIÐ ALLAN SóLAhrINgINN 298 kr
179 kr
649 kr
267 kr 179 kr 149 kr
APPELSíNur/ BANANAr
AgÚrkur íSLENSkAr
OkkAr kAFFI
KR/KG.
STK.
400 GR
mS rJómI 1/4 LTR.
mS SkYr.IS PRóTEINDRYKKUR JARÐARbERJA EÐA bANANAR - 300 ML
NÝmJóLk / LéttmJóLk 1 LÍTER
ALLt þAÐ NAuÐSYNLEgAStA tIL hEImILISINS á hAgStæÐu vErÐI
SAmLOkur & SALÖt
rJÚkANDI hEItt kAFFI
BAkAÐ á StAÐNum
MIKIÐ ÚRVAL, FÍNT Í HÁDEGISMATINN
NÝMALAÐ ILMANDI KAFFI
KLEINUHRINGIR, RÚNSTYKKI OG FLEIRA
g L æ SIL NÝ kr A EgA m BÚ Ð HRINGbRAUT 55 | REYKJAENSbæ
GleðileGa Hátíð
Það er náttúran sem færir okkur notaleg jól
ORKA NÁTTÚRUNNAR Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is
Frá 1921 hefur rafmagnið frá okkur lýst upp aðventuna, hnoðað piparkökudeigið, bakað smákökurnar, steikt laufabrauðið og spilað jólalögin. Nú starfrækir ON hraðhleðslustöðvar á þrettán stöðum á landinu og tekur því jafnvel þátt í að knýja sjálfan heimilisbílinn í jólastússinu. Óskum landsmönnum öllum notalegrar hátíðar ljóss og friðar.
50
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. desember 2016
Á auðvelt með að
hrífast af landslagsmyndum ●●Jón Steinar Sæmundsson er nánast alltaf með myndavél við höndina
Jón Steinar Sæmundsson er fæddur á Ísafirði 30. júní en fluttist til Grindavíkur, sem hann kallar Nafla alheimsins, á fyrsta ári. Jón Steinar lauk grunnskólagöngu í Grindavík og fór í framhaldinu í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og nam þar húsasmíði að mestu leiti, án þess þó að ljúka náminu. Hann starfar í dag sem tæknistjóri hjá Vísi h/f í Grindavík og sér um viðhald á vélum og búnaði í saltfiskvinnslu fyrirtækisins í Grindavík. Þegar Jón Steinar er ekki í vinnunni þá er hann út um allar koppa grundir með myndavélina. Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Hvenær fékkstu áhuga á ljósmyndun? Váhh. Þetta er stór spurning. Ég vil meina að ég hafi alltaf haft áhuga á ljósmyndun og alltaf dáðst af fallegum myndum. Fyrsta alvöru myndavélin mín var Canon 40D. Hvað kveikti áhugann? Stórt er spurt. Hver hefur ekki setið eða staðið fyrir framan fallega mynd og dáðst að? Ég á auðvelt með að hrífast af landslagsmyndum og myndum sem tengjast sjónum á einhvern hátt og held að þannig myndir hafi kveikt í mér í upphafi. Hvernig er ljósmyndataskan í dag? Hvaða vél og linsur eru í töskunni og hvaða linsu ertu oftast að nota? Í dag er ég að nota tvær vélar, annars vegar Canon 7D og hins vegar er það Canon 7D Mark II. Ég nota Canon EF 100 - 400mm aðdráttarlinsu aðallega þegar að ég er að mynda báta koma að landi og svo nota ég Canon 16 - 35mm í nánast allt annað og bæti við hana „filterum“ og öðru sem við þarf að éta. Svo leynist reyndar í töskunni Samyang 2,8 - 14mm sem er dregin upp þegar norðurljósin sýna sig. Það er eitthvað fleira dót í pokunum en það er dýpra á því. Hvar liggur áhugasvið þitt í ljósmynduninni? Bátar eru þér hugleiknir. Já, bátar eru mér nánast allt, ef svo má segja. Maður er náttúrulega alinn upp við sjávarsíðuna og kemst þar af leiðandi ekki undan því að hrífast af því sem gengur á í kringum mann og
Áhugaljósmyndarinn Jón Steinar Sæmundsson.
af því að mynda fugla. Áttu þér uppáhalds fugl? Já, ég hef gaman að því að mynda fugla og einnig að fylgjast með þeim, þó svo að ég hafi ekki sökkt mér í það að mynda þá. Það sagði mér maður sem er í fuglaljósmyndun; „Þegar að þú ferð af fullum krafti í fuglana, þá getur þú kysst allt annað bless.“ Þannig að ég hef ekki farið að krafti í það frekar en golfið. Uppáhaldsfuglinn minn er tvímælalaust himbriminn. Ég hef bæði þurft að slást við að ná góðum myndum af honum og einnig lent í slagsmálum við að greiða hann úr silunganetum.
Norðurljósin
Norðurljósin eru magnað fyrirbæri og heilla ábyggilega meirihluta ljósmyndara og er undirritaður þar engin undantekning. Þessi mynd er kannski mín besta en skorar samt hátt þar sem að þetta líka magnaða stjörnuhrap rataði inn á hana. Það eru svona augnablik sem gera það fullkomlega þess virði að standa klukkutímum saman úti í kaldri nóttinni, og maður fer sáttur á koddann. Kröftugur fugl sem að ég ber ómælda virðingu fyrir. Ferðu í sérstakar ljósmyndaferðir eða ertu bara með myndavélina til taks ef þú sérð eitthvað áhugavert? Ég fer í ljósmyndaferðir af og til þegar færi gefast og hins vegar þá er ég nánast alltaf með vélarnar með mér þegar ég er á ferðinni utan vinnutíma. Ég hafði marg oft lent í því að kíkja út um gluggann og ákveða, nei það er ekkert sérstakt veður, eða skyggni og ekkert að sjá og þar fram eftir götunum... Svo sá maður eitthvað, en engin vél með í för. Þannig að núna hef ég tamið mér að grípa vélarnar alltaf með.
Ertu að fara um landið til að mynda eða er „nafli alheimsins“ og hans nánasta umhverfi þitt svæði? Nafli alheimsins er náttúrulega mitt svæði. En, jú ég rata alveg út fyrir grindahliðið og geri mér reglulega ferðir víðar um land. Hefur þú haldið sýningu eða stendur til að gera slíkt? Nei, ég hef ekki haldið sýningu en það hefur verið orðað við mig nokkrum sinnum að gera slíkt. Þá kikkar félagsfælnin inn. Nei, það hefur bara aldrei orðið af því, einhverra hluta vegna.
eitt af því er náttúrulega sjórinn og allt í kringum hann. Hetjurnar sem voru á bátunum og einnig bátarnir sjálfir. Allt átti þetta sína sögu, og að heyra sögur þegar maður var að alast upp af Willard eða Venna á Grindvíking, Ölver á Geirfugli, Svenna Ísaks á Hrafni og Helga á Hafberginu þegar að þeir lentu í mokfiskiríii eða lentu í brjáluðu veðri og þar fram eftir götunum. Það kveikti ákveðinn áhuga og ljóma yfir sjómennsku og bátum. Ég geri ráð fyrir að þú hafir varið mörgum klukkustundum við innsiglinguna í von um rétta augnablikið? Hefur þú náð því? Já, innsiglingin hefur verið á köflum mitt annað heimili og ég hef, þó ég segi sjálfur frá, náð nokkuð góðum myndum, en svo kemur alltaf upp kappið í manni að ná betri mynd en maður náði síðast. Þannig að svarið við þessari er já, ég er búinn að fanga rétta augnablikið, en á bara eftir að ná því „örlítið“ réttara. Þú hefur einnig gaman
Ágúst GK í brimi
Áhugi minn á bátum og bátamyndum hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum. Það að hafa alist upp í kringum sjóinn og séð bátana koma að í alls kyns veðrum getur ekki gert annað en að byggja upp hjá manni ákveðna virðingu fyrir hafinu og þeim mönnum sem það sækja. Þessi mynd finnst mér sýna svo vel hvaða krafta menn eru að slást við þegar sótt er yfir vetrartímann og veður eru válynd. Tek hatt minn ofan fyrir sjómönnum þessa lands. Það eru myndir eins og þessi sem að gera þetta brölt þess virði að halda áfram og gera betur. Reyna að ná betri mynd næst...
fimmtudagur 22. desember 2016
51
VÍKURFRÉTTIR
JÓN
STEINAR YFIRHEYRÐUR
Rjúpa
Þetta er ekki besta myndin sem að ég hef tekið, en í mínum huga er þetta magnaðasta „mómentið“ sem ég hef fangað. Ég fékk að fljóta með bróðir mínum sem er mikill veiðimaður á rjúpu og ég kom auga á þessa og byrjaði að mynda. Þar sem að ég var að mynda þá læddist bróðir minn til hliðar við mig án þess að ég yrði hans var og hleypti af og þarna er þetta rjúpugrey í miðju hagléli. Ég vill meina að þetta sé óheppnasta rjúpa í heimi, skotin tvisvar á sama augnablikinu með myndavél og haglara.
Hvaða tegund af tannkremi notar þú? Kolgata.
Hvernig dettur mönnum í hug að Grindvíking langi að fljúga til Keflavíkur?
Síðasta kvöldmáltíðin? Hverslags spurning er þetta? Ég er ekki dauður enn og hef þar af leiðandi ekki borðað síðustu kvöldmáltíðina enn.
Fallegasti staður á landinu? Fyrir utan Nafla alheimsins (Grindavík), þá er skora gotstöðvarnar, Ísafjörður, hátt hjá mér.
Brenndur eða grafinn? Pottþétt grafinn. Eftirlifendur skulu sko fá að hafa fyrir mér. Hvað setur þú á pylsuna? Allt nema þetta aukarugl sem að Akureyringar og nærsveitamenn tóku upp á að troða með í brauðið. Hvar lætur þú klippa þig? Þar sem maður er nú að mestu vaxinn upp úr gærunni, þá fer rúningurinn á því litla sem að eftir er bara fram heima fyrir. Borðar þú svið? Já. Ég svoleiðis gúffa þeim í mig eins og enginn sé morgundagurinn og þetta séu hreinlega síðustu sviðin í heiminum, en sé svo eftir öllu að loknum síðasta bitanum. Hvað gerir þú milli klukkan 5 og 7 á daginn? Oftast nær fer þessi tími í vinnu. En ef heppnin er með manni þá kemst maður fyrr út með myndavélina. Súrmaturinn eða pottrétturinn? Súrmaturinn. Pottrétturinn er bara ekki minn tebolli.
Himbriminn
Himbriminn er klárlega minn uppáhalds fugl og ljósmyndadellan er þeim kostum búin að hún dregur mann út í náttúruna og hvetur til hreyfingar sem hverjum manni er holl. Svo er auðvitað ekki leiðinlegt að fá svona bónusa eins og þennan, að komast í nálægð við Himbrimann sitjandi á óðali sínu.
Hvað ertu með í vinstri vasanum? Ekkert. Sit á vasalausri brókinni að skrifa svörin við þessum spurningum. Hver væri titill ævisögu þinnar? Þetta reddast. Hver er draumabíllinn? Ford F 450. Bara af því að Trump er mættur á svæðið og hafnar öllu loftslagsruglinu. Þá er um að gera að fá sér eitthvað sem að eyðir öllu sem að maður setur á hann og helst helling í viðbót. Ferðu í kirkju? Já. Brúðkaup og jarðarfarir. Algjör óþarfi að fara oftar. Innanlandsflug til Keflavíkurflugvallar?
Kjöt eða fiskur? Jafn vígur á bæði, þó svo að góð steik toppi allt. Evrópuferð eða Ameríku? Evrópuferð fyrir allan peninginn. Hef engan áhuga að að skoða nagdýrið á hausnum á Trump. Gist í fangaklefa? Nei, til hvers? Sturta eða bað? Sturta, takk. Hver er besta ákvörðun sem þú hefur tekið? Ég er alveg örugglega ekki búinn að taka hana ! Eða.... er ég? Hvaða sögu hafa foreldrar þínir endurtekið sagt af þér? Hversu góður og stilltur ég var sem barn. Alveg satt! Furðulegasti matur sem þú hefur borðað? Surströmming. Þetta er rotin síld frá Svíþjóð og er algjör viðbjóður sem að hvorki er á borð bjóðandi eða á vetur setjandi. Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í ? Það er án efa hláturkast í biðröð á leið í bíó fyrir all nokkrum árum með vini og til að bjarga andlitum okkar og forðast hneykslan annara í röðinni, þá stukkum við fyrir horn til að jafna okkur sem að tók þó nokkurn tíma. Þegar við höfðum tekið okkur saman í andlitinu og komum aftur fyrir hornið hafði röðin ekkert hreyfst. Hver er fyrsta endurminning þín? Sem lítill pjakkur á þríhjóli í Betra hverfinu (Þórkötlustaðahverfi). Sameinuð sveitarfélög á Suðurnesjum eða áfram eins og nú? Áfram eins og nú. Okkur Grindvíkingum þykir ekki leiðinlegt að skilja Keflvíkinga eftir í reyknum.
Sólstafir
Þetta er mynd sem að er tekin út yfir Járngerðarstaðasundið (innsiglingin til Grindavíkur). Eftir að ég tók upp þá reglu að hafa alltaf myndavélarnar með mér, brenndur af því svo oft að hafa ákveðið að nú væri veður og skyggni svo leiðinlegt og lélegt og örugglega ekkert að sjá, en lenda svo í því myndavélalaus að sjá eitthvað sniðugt. Þá er þetta einmitt dæmi mynd tekna á þannig degi. Ekkert nema dumbungur og drungi og svo allt í einu búmm, himininn opnast og þessir líka fallegu sólstafir stinga sér niður. Ljósmyndarinn fór glaður heim þarna í stað þess að vera bölvandi yfir því að hafa ekki tekið græjurnar með.
„Þegar að þú ferð af fullum krafti í fuglana, þá getur þú kysst allt annað bless.“
Hér eru græjurnar sem til eru á lagernum þessa stundina.
52
VÍKURFRÉTTIR
STÖRF HJÁ IGS DEILDARSTJÓRI FRÍLAGERS IGS ehf leitar að öflugum einstaklingi í spennandi og krefjandi starf deildarstjóra Frílagers. HELSTU VERKEFNI:
HÆFNISKRÖFUR:
· Ábyrgð á daglegum rekstri frílagers
· Góð Excel og bókhalds þekking
· Birgðastýring
· Hæfni í mannlegum samskiptum og stjórnun
· Áætlanagerð
· Góð íslensku-og enskukunnátta
· Dagleg samskipti við viðskiptavini og stofnanir
· Mikið frumkvæði og frjó hugsun · Öguð, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð · Útsjónarsemi og heiðarleiki.
Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS sjá www.igs.is fyrir 6. janúar 2017
fimmtudagur 22. desember 2016
Blýantsteikningar til styrktar Unicef ●●Arís Eva lætur gott af sér leiða Eftirprentanir myndArís Eva Vilhelmsdóttir, anna kosta 6.900 krónur. 26 ára úr Reykjanesbæ, A r í s ve rð u r á h árfæst við ýmis konar listgreiðslustofunni Háráttu sköpun og hefur teiknað við Hafnargötu í Reykjafrá því hún man eftir sér. nesbæ á Þorláksmessu Síðasta sumar eignaðist með myndirnar sínar. hún sitt fyrsta barn og Veggmyndirnar er einná síðustu vikum meðig hægt að nálgast á Fagöngunnar velti hún því cebook-síðunni Studio mikið fyrir sér hversu Aris og á vinnustofu erfitt það er fyrir barnsSossu við Mánagötu í hafandi konur að vera Reykjanesbæ. Myndá flótta undan stríði. irnar teiknaði Arís með Hún ákvað því að teikna myndir af börnum, selja Arís Eva eignaðist dóttur- blýpenna með þykku og láta ágóðann renna ina Flóru Lind Fannars- blýi á vatnslitapappír og dóttur síðasta sumar. Á til Unicef, Barnahjálpar meðgöngunni hugsaði hún segir hún það gefa mjög Sameinuðu þjóðanna. mikið til barnshafandi grófa og skemmtilega „Ég var eiginlega með kvenna á flótta undan stríði áferð. b ör n á he i l anu m á og ákvað að selja blýants- Arís er að mestu sjálfþessum tíma og lang- teikningar og láta ágóðann lærð í teikningu en lærði líka myndlist í Fjölaði til að gera fallega renna til Unicef brautaskóla Suðurnesja seríu með teikningum og hefur lokið fornámi af börnum. Mig langaði við Myndlistarskóla að gefa af mér til UniReykjavíkur. Þá lærði cef og reyna að hjálpa,“ segir hún. Markmiðið er að safna fyrir hún þrívíddar tölvuleikjahönnun í eitt vatnsdælu sem kostar 52.540 krónur ár í Hollandi og var myndlist ein af og nýta svo afganginn til að kaupa undirstöðum þess náms og því skipti sköpum fyrir Arís að vera með góðan teppi, mat og bólusetningar. Arís teiknaði fjórar myndir og selur grunn í teikningu. Hún hefur einnig frumrit þeirra á 29.000 krónur og lokið einni önn í handritagerð og leikrennur sá ágóði óskiptur til Unicef. list frá Kvikmyndaskóla Íslands.
Í þessum þætti: Guðni Kjartansson Á tónleikum með Elízu Keflvískir bókaútgefendur Jólaball í Brygg juhúsinu
GUÐNI KJARTANSSON &
LD! Ö V K Í U HORFÐ
í keflvískri knattspyrnu og árin með landsliðum Íslands
SU ÐU RNESJAM AG A S Í N á Hringbraut fimmtudagskvöld kl. 21:30
Þátturinn er einnig á vf.is og kapalrásinni í Reykjanesbæ
MUNUM EFTIR AÐ GLEÐJA OG NJÓTA UM HÁTÍÐARNAR
www.dutyfree.is
HVÍTA HÚSIÐ | SÍA 2015
Fríhöfnin óskar þér gleðilegrar hátíðar og endalausra ævintýra á nýju ári.
54
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. desember 2016
Jólaspjall:
Appelsínur og epli -voru góðgætið í þá daga
AUGLÝSING Deiliskipulagsbreyting Hafnargata 12
Þórður Karlsson, gæða- og öryggisstjóri hjá Íslenskum aðalverktökum, er fæddur og uppalinn í Reykjanesbæ og er giftur Sigurlínu Högnadóttur. Þórður keyrir alltaf út síðustu jólakortin sem „gleymdist“ að senda, á aðfangadegi. Eitt sinn fengu þau hjónin pakka með snuði í jólagjöf, en það gaf til kynna að þau væru að verða afi og amma.
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með auglýst til kynningar eftirfarandi deiliskipulagstillaga. Deiliskipulagssvæðið er lóðin Hafnargata 12 (SBK-lóðin). Fjarlægja á núverandi byggingar og byggja 3. hæða íbúðablokk með 77 íbúðum og bílastæðakjallara. Skv. gildandi aðalskipulagi er þetta íbúðasvæði. Tillaga ásamt fylgigögnum verður til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 22. desember 2016 til 2. febrúar 2017. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 2. febrúar 2017. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ.
Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Það myndi vera Christmas Vacation. Drepfyndin, sérstaklega á þessum tíma árs.
Reykjanesbæ, 22. desember 2016.
Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Við sendum ennþá eitthvað af jólakortum, það er bara hluti af stemningunni að fá fallegar jólakveðjur á pappír frá ættingjum og vinum.. En við setjum jólakveðju á Facebook líka.
Skipulagsfulltrúi
Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Já, eru það ekki allir, það má til dæmis byrja á undirbúningnum, skatan á Þorláksmessu, undirbúa jólamatinn, skreyta jólatréð og alltaf minnist ég þess að þurfa að keyra út einhverjum jólakortum á aðfangadag, sem „gleymdist“ að senda. Síðan er kveikt á kertum á leiðum hjá látnum ættingjum. Maturinn er alltaf á sama tíma og pakkarnir opnaðir þegar búið er að ganga frá eftir matinn. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ætli það sé ekki pakkinn með snuðinu, um jólin 2002 sem gaf til kynna að við værum að verða afi og amma. Fyrsta barnabarnið fæddist svo í júlí 2003. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Já, mér er minnisstætt að hafa fengið sama jólamat og við eldum um hver jól. Í minningunni var alltaf snjór og lítið um jólaseríur í gluggum nema þá helst hjá bandarískum fjölskyldum sem bjuggu í bænum. Í þá daga var jólagóðgætið appelsínur og epli, síðan var kannski laumað til okkar konfektmola á aðfangadagskvöldi. Það flæddi ekki sælgæti úr öllum skálum í þá daga.
Kynntu þér málið á bluelagoon.is/atvinna og sæktu um
VIÐ LEITUM AÐ IÐNAÐARMÖNNUM Á FASTEIGNASVIÐ Iðnaðarmenn eru mikilvægur hluti af starfsliði Bláa Lónsins. Nú viljum við stækka þennan samstillta hóp og bjóðum upp á þægilegan vinnutíma og góðan aðbúnað. STÖRF Í BOÐI
- Húsasmiður (innréttingasmíði) - Húsasmiður (almenn smíðavinna) - Pípulagningamaður / vélstjóri
Einstakt umhverfi
Góður starfsandi
Skemmtiferðir og fríðindi
Góður matur
Akstur til og frá vinnu
Nánari upplýsingar veitir Ámundínus Örn Öfjörð í síma 660 8820. Umsóknarfrestur er til og með 8. jan.
Hvað er í matinn á aðfangadag? Við erum alltaf með beinlausa fugla í matinn á aðfangadag. Það hefur verið þannig alveg frá því ég man eftir mér og eitthvað aftur í ættir. Þetta er þó ekki fuglakjöt enda útbúið úr lambalærisneiðum sem eru úrbeinaðar, barðar, kryddaðar og fylltar með kjöt-
farsi og beikon sneiðum. Þetta er síðan vafið og bakað í ofni. Það bíða allir spenntir eftir þessum eðal mat. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Þegar allar verslanir hafa lokað á aðfangadag. Þá fyrst færist ró yfir.. nei í alvöru þá finnst mér þetta vera komið þegar búið er að skreyta jólatréð á Þorláksmessukvöldi. Þá skreytum við saman, hlustum á jólatónlist og jólakveðjur í útvarpi. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Við höfum tvívegis verið erlendis um jól og það var mjög gaman. Í dag er það þannig að helst vill maður hafa alla fjölskylduna með og krefst það mikillar skipulagningar ef allir eiga að komast. Nú seinni árin höfum við haldið okkur heima en hver veit hvað verður, það er alltaf gaman að breyta til. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Ekki get ég sagt það. Mér finnst yfirleitt allt jólaskraut fallegt og gott í hófi. Ég var duglegri að skreyta hér áður fyrr en nú vil ég hafa þetta einfalt og fljótlegt. Hvernig verð þú jóladegi? Það er slökun fram eftir degi, lesið eða horft á sjónvarp og nartað í afganga frá aðfangadegi. Seinni partinn er síðan haldið í Kópavoginn, í heimsókn til tengdó, þar sem hangikjöt er á boðstólum. Þá er fjör, tekið í spil og haft ofan af fyrir þeim yngstu. Óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Frá þingmanni VG - til ykkar í Suðurkjördæmi Mörgum sögum fer af viðræðum um stjórnarmyndun og vinnu við fjárlagagerð. Reyndar er ólíku saman að jafna vegna þess að niðurstöður kosninga skópu engar skýrar línur utan um augljósa stjórn Ari Trausti Guð- en við breytingar á fjárlögum mundsson verða til alls konar samstöðuhópar. Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur haldið fast við þau fyrirheit að afla fjár til allra brýnustu umbóta í heibrigðisþjónustu, menntakerfi og velferðarkerfi, og úrbóta í samgöngum hvers konar. Sett það í fyrsta sæti, fram fyrir til dæmis breytingar í atvinnumálum eða hvað varðar stjórnarskrá, en hvort tveggja eru þó mikilvæg mál sem ríkisstjórn myndast um. Á ríkisfjármálum hefur strandað þegar hér er komið, um miðjan desember. Þetta er mér efst í huga þegar hallar að jólum og áramótum, nú þegar vinna við ný fjárlög ríkisins er mikil og ótal erindi berast og áköll heyrast um aukið fé til brýnna verkefna. Eftir nokkra daga taka hugrenningar um jól og nýtt ár
að lauma sér í þingstörfin og andrúmsloftið á vinnustaðnum tekur að léttast. Hin tvöfalda hátíð í desember, gömlu, hefðbundnu jólin og vonglöð áramótin, mótar mannlífið mestan hluta desember. Það er bæði gott og hollt en um leið má minna á hófstillingu og mannúð sem væri óskandi að einkenndi þennan tíma. Langt frá okkur, víða í heimi, einkenna skelfileg manndráp og mannréttindabrot heilu samfélögin. Við getum bæði fordæmt gerendurna og lýst samúð gagnvart þolendum en verðum að ganga lengra. Sem ríki verðum við að leggja hjálpar- og friðaöflunum lið. Sem mannverur verðum við að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur er hrópa á hjálp. Það gerum við með hjálparstarfi þar sem fólkið er statt og með því að taka við flóttamönnum með reisn og kærleika. Ég óska íbúum Suðurkjördæmis gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári.
56
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. desember 2016
Borða fisk
á aðfangadagskvöld ●●Í Póllandi tíðkast að bjóða upp á tólf rétti á aðfangadagskvöld og eiga þeir að tákna gæfu alla tólf mánuðina á nýja árinu.
Börn af pólskum uppruna á jólatrésskemmtun ■■Jólatrésskemmtun Krakka Akademíunnar var haldin í húsnæði Keilis á Ásbrú laugardaginn 17. desember síðastliðinn. Jólasveinninn mætti og gladdi börnin með ýmsum gjöfum. Í Krakka Akademíunni læra börn af pólskum uppruna pólsku á sama hátt og jafnaldrar þeirra í Póllandi. Meðfylgjandi myndir voru teknar á skemmtuninni.
Það er jólaös í Pólsku búðinni Mini Market í miðbæ Reykjanesbæjar eins og víðast hvar í verslunum þessa dagana. Þar versla Pólverjar í jólamatinn sem er nokkuð frábrugðinn þeim hefðbundna íslenska. Á veisluborðinu á aðfangadag í Póllandi tíðkast að bjóða upp á tólf rétti og á það að tákna velsæld alla mánuðina á nýja árinu. Ekki er kjöt í neinum réttanna. Að sögn Agnesar Agnieszku hjá Pólsku búðinni er aðalrétturinn yfirleitt fiskréttur sem kallaður er „carb.“ Meðal annarra rétta á aðfangadagskvöld eru síld, rauðrófusúpa eða sveppasúpa með ravioli, hálfmánar með káli og sveppum og birkikaka. Undir dúkinn á veisluborðinu er sett hey til að minnast þess að Jesús hafi verið lagður í jötu eftir fæðingu. „Ofan á dúkinn á miðju borði setjum við alltaf brauð eða oblátu og deilum henni áður en við óskum hvert öðru gleðilegra jóla og gleðilegs árs og byrjum að borða,“ segir Agnes. Við pólskt jólaveisluborð er alltaf eitt autt sæti, svona til öryggis ef óvæntur gestur skyldi kíkja við. Einnig tíðkast að fólk bjóði til sín þeim sem ekki eiga fjölskyldu til að verja aðfangadagskvöldi með. Eftir jólamáltíðina eru jólalög sungin saman og sælgætismolar eru hengdir á jólatréð og börnin fá leyfi til að næla sér í nokkra.
Beata Mioduszewska og Martyna Praznowska, starfsmenn Pólsku búðarinnar í Reykjanesbæ. VF-mynd/dagnyhulda
„Undir dúkinn á veisluborðinu er sett hey til að minnast þess að Jesús hafi verið lagður í jötu eftir fæðingu“
OPNUNARTÍMAR UM JÓL OG ÁRAMÓT Starfstöðvar Kölku í Helguvík, Grindavík og Vogum verða lokaðar á aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag. Að öðru leyti verða starfstöðvar fyrirtækisins opnar eins og venjulega. Sjá nánar á heimasíðu fyrirtækisins: www.kalka.is Við óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða!
HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTUR YFIR JÓL OG ÁRAMÓT Í KEFLAVÍKURKIRKJU AÐFANGADAGUR 24. DESEMBER Jólin allsstaðar, hátíðar barnaog fjölskyldustund kl. 16:00. Aftansöngur kl. 18:00. Nóttin var sú ágæt ein kl. 23:30. Miðnæturstund í kirkjunni. Karlakvartettinn Kóngarnir syngur. JÓLADAGUR 25. DESEMBER Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Helgistundir á Hrafnistu á jóladag Nesvellir – hjúkrunarheimili kl. 15:00. Hlévangur – hjúkrunarheimili kl. 15:30. GAMLÁRSDAGUR 31. DESEMBER Hátíðarguðsþjónusta kl. 18:00. NÝÁRSDAGUR 1. JANÚAR Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Kór Keflavíkurkirkju syngur við allar stundirnar undir stjórn Arnór Vilbergsonar organista. Sr. Erla og sr. Eva Björk þjóna ásamt messuþjónum.
JÓLALUKKU VF FÆRÐU Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM: GEORG V. HANNAH Úr og skartgripir
6 ÞÚSUND VINNINGAR AÐ VERÐMÆTI UM 7 MILLJÓNIR KRÓNA ÞAÐ GETUR FYLGT ÞVÍ MIKIL LUKKA AÐ GERA JÓLAINNKAUPIN Á SUÐURNESJUM
3. ÚTDRÁTTUR - VINNINGSHAFAR 16 20 16 20 16 20 16 20
Iphone 7 - Hafliði Hjaltalín, Laut 37 Grindavík 120 þús. kr. Nettó-gjafabréf - Hallgrímur Stefánsson, Hjallarvegi 3 f, Njarðvík Icelandair ferðavinningur - Birgir Ómarsson, Hringbraut 82, Keflavík
étta urfrétta Víkurfr kurVík aleikur fmiðalei Skafmið étta urfr Ska m Víkurfr esju kur urn alei Suð áSuð fmið étta m lana Ska esju vers Vík urn og kur áSuð alei lana m fmið vers Ska esju og urn og verslana á esjum og verslana á Suðurn
15 þús. kr. Nettó-gjafabréf - Unnar Kristjánsson, Smáratúni 46, Keflavík 10 þús. kr. Nettó-gjafabréf - Sólborg Þorláksdóttir, Suðuróp 1, Grindavík 10 þús. kr. Nettó-gjafabréf - Fjaðursteinn, Baðsvellir 12, Grindavík 10 þús. kr. Nettó-gjafabréf - Erla Ósk Pétursdóttir, Efstahraun 32, Grindavík 10 þús. kr. Nettó-gjafabréf - Hermann Ólafsson, Árnastíg 10, Grindavík 10 þús. kr. Nettó-gjafabréf - Lilja Thomas, Miðóp 16, Grindavík 10 þús. kr. Nettó-gjafabréf - Hildur Gunnarsdóttir, Glæsivellir 14, Grindavík
SÍÐASTI ÚTDRÁTTUR ER 24. DESEMBER.
4 STK
IPHONE 7 NIR ÚT Í VERÐA DREG UNNI JÓLALUKK
NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA Jólalukku miðum í Nettó því það verður dregið 4 sinnum í desember og meðal vinninga eru 4 STK. IPHONE 7 2 STK. 120.000,- KR GJAFABRÉF FRÁ NETTÓ 4 STK. ICELANDAIR FERÐAVINNINGAR 10 STK. 10.000,- OG 4 STK. 15.000,- KR. GJAFABRÉF FRÁ NETTÓ Í NJARÐVÍK OG GRINDAVÍK 20 STK. KONFEKTKASSAR
markhönnun ehf
JÓLAGJÖFIN FÆ GUNNAR HELGASON MUN ÁRITA BÓK SÍNA PABBI PRÓFESSOR Í NETTÓ KROSSMÓA FIMMTUDAGINN 22. DESEMBER MILLI KL 17:15-18:30
ÚTKALL - KRAFTAVERK UNDIR JÖKLI
PABBI PRÓFESSOR
2.879 KR
4.199 KR
STÓRA SMÁKÖKUBÓKIN
2.999 KR
STJÖRNUSKOÐUN
3.834 KR
FÓLK Á FJÖLLUM
4.549 KR
BLÓMIÐ
4.549 KR
ELDHÚS GRÆNKERANS
4.689 KR
ELSKU DRAUMA MÍN
4.499 KR
PETSAMO
4.199 KR
NÓTTIN SEM ÖLLU BREYTTI
4.199 KR
Tilboðin gilda 22. – 24. september 2016 Tilboðin gilda meðan birgðir endast · Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl · Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
FÆST HJÁ OKKUR KRAFLA - SPIL
8.498 KR
Orðaleikur fyrir tvo til fjóra leikmenn sem reynir á orðaforða, hugmyndaflug og herkænsku
STÓRA BÓKIN UM VILLIBRÁÐ
6.699 KR
ÞÍN EIGIN HROLLVEKJA
2.879 KR
AFLAUSN
3.989 KR
HEIÐA Á LJÓTARSTÖÐUM
4.549 KR
4.874 KR
LADDI
SVARTALOGN
VONDA FRÆNKAN
VÍSINDABÓK VILLA SKYNJUN OG SKYNVILLUR
4.199 KR
4.549 KR
2.924 KR
TVÍSAGA
3.704 KR
www.netto.is Mjódd · Salavegur · Búðakór · Grandi · Hafnarfjörður · Hrísalundur · Glerártorg · Húsavík · Höfn · Iðavellir · Grindavík · Krossmói · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss
60
VÍKURFRÉTTIR
Jólafjör í skrúðgarðinum
í Reykjanesbæ
fimmtudagur 22. desember 2016
■■Börn af leikskólanum Vesturbergi og Tjarnarseli og nemendur úr 1. bekk í Myllubakkaskóla gerðu sér glaðan dag í skrúðgarðinum í Reykjanesbæ á dögunum. Þar dönsuðu þau í kringum jólatré, skiptust á jólakortum og gæddu sér á heitu kakói og piparkökum.
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
Meleyri
Fiskverkun Ásbergs Völlur Leikskóli
Sími: 4567600
Sjómanna og vélstjórafélag Grindavíkur
Ásabyggð Leigufélag
Lagardere Travel Retail ehf. Sér um rekstur veitingastaða og sælkeraverslunar á Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Markmið fyrirtækisins er að bjóða framúrskarandi þjónustu í lifandi og alþjóðlegu starfsumhverfi. Starfsmenn óskast í fjölbreytt störf. Í boði eru störf í eldhúsi, afgreiðslu og þjónustu. Kokkar, aðstoðarkokkar, kaffibarþjónar og allir þeir sem hafa áhuga á því að vinna í skemmtilegu og fjölbreyttu umhverfi. Við leitum eftir fólki í fullt starf og hlutastarf. Þeir sem hafa áhuga senda inn umsókn á www.ltr.is eða senda á hjordisr@ltr.is
Einnig er laust starf bókara Helstu verkefni: Móttaka og skráning innkaupareikninga. Færsla bókhalds og afstemmingar lánardrottna. Birgðabókhald, s.s. skráning birgða og birgðabreytinga. Kostnaðarútreikningar á birgðum Önnur almenn skrifstofustörf. Hæfniskröfur: Haldbær reynsla af bókhaldsstörfum skilyrði. Góð almenn tölvukunnátta. Skipulögð, talnaglögg/ur, vönduð og nákvæm vinnubrögð. Frumkvæði, skipulagshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
LAUS STÖRF Í
FARÞEGAAFGREIÐSLU
IGS 2017
IGS LEITAR AÐ ÖFLUGUM EINSTAKLINGUM Í FJÖLBREYTILEG OG SKEMMTILEG STÖRF HJÁ FYRIRTÆKINU. UM ER AÐ RÆÐA STÖRF Í FARÞEGAAFGREIÐSLU Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi, sveiganleika og árvekni. Unnið er á vöktum.
Nánari upplýsingar um aldurstakmark og hæfniskröfur: FARÞEGAAFGREIÐSLA Starfið felst m.a. í innritun farþega og annarri tengdri þjónustu við þá. Lágmarksaldur 20 ár, stúdentspróf æskilegt en ekki skilyrði, góð tungumála -og tölvukunnátta Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið
Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS sjá www.igs.is fyrir 1. febrúar 2017.
62
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. desember 2016
Jólamyndina sem vinir og fjölskylda í Póllandi fengu senda þessi jólin.
Í PÓLLANDI LÆTUR FÓLK ÞAÐ GANGA FYRIR AÐ VINNA
●●Ania og Marcin Rubaj ● una hag sínum vel á Suðurnesjum
Ania og Marcin Rubaj ætluðu að vinna á Íslandi í eitt ár og safna pening en hafa nú komið sér vel fyrir í Reykjanesbæ. Þau segja lífið á Íslandi gott en sakna sinna nánustu í Póllandi, sérstaklega um jólin. Fyrstu árin töluðu þau ensku við Íslendinga en ákváðu að ná góðum tökum á íslenskunni þegar eldri sonur þeirra fæddist enda gátu þau ekki hugsað sér að hann myndi þurfa að túlka fyrir þau þegar hann yrði eldri. Ania Beata Rubaj og Marcin Marek Rubaj fluttu frá Póllandi til Íslands fyrir níu árum síðan, þá um tvítugt. Þau ætluðu að vinna hérna í eitt ár og fara svo aftur heim. Þau búa enn á Íslandi, hafa fest kaup á fallegu húsi í Reykjanesbæ og eiga tvo syni, Kacper 6 ára og Alexander 2 ára og sjá framtíðina fyrir sér á Íslandi. „Lífið á Íslandi er yndislegt en ég sakna fjölskyldu og vina í Póllandi mikið. Sérstaklega núna um jólin. Stundum hugsa ég um að flytja til baka en minni mig þá á að lífsbaráttan þar er miklu erfiðari. Við Marcin erum heppin að hafa bæði góð störf á Íslandi og strákarnir okkar una sér vel í skóla og leikskóla,“ segir Ania.
Eiga góða að á Íslandi
Bæði eru þau Ania og Marcin frá suðurhluta Póllands en kynntust þegar þau voru í skólaferðalagi með menntaskólum sínum í norður Póllandi. Stuttu eftir stúdentsprófin hjá Marcin hafði bróðir hans samband frá Íslandi og sagði honum að starf hefði verið að losna í kavíarvinnslu í Njarðvík og bauðst til að lána honum fyrir flugfarinu. „Ég vildi ekki fara til Íslands nema Ania kæmi með. Hún hafði enga vinnu fyrstu vikurnar, við þekktum fáa og töluðum ekki tungumálið svo þetta var erfitt til að byrja með,“ segir
Marcin. Eftir nokkurra vikna dvöl á Íslandi fékk Ania vinnu hjá Matstofu Kópavogs sem síðar færði út kvíarnar og opnaði veitingastað á Keflavíkurflugvelli og þá færði hún sig þangað. Þar vann Ania hjá Haraldi Helgasyni úr Njarðvík. Magnús Þórisson, sem í dag á Réttinn, starfaði á þeim tíma á veitingastaðnum á Keflavíkurflugvelli og þegar hann stofnaði réttinn bauð hann Öniu vinnu. Enn þann dag í dag, tæpum átta árum síðar, starfar Ania enn á Réttinum. „Maggi og hans fjölskylda hafa verið eins og íslenska fjölskyldan okkar og það er alveg ómetanlegt. Við njótum mikils skilnings á því að við eigum ekki ömmur og afa hér á Íslandi sem passa fyrir okkur. Til dæmis núna í vikunni lauk skólanum fyrr síðasta daginn fyrir jólafrí og þá passaði sonur Magga strákinn okkar, svona fáum við dýrmæta hjálp við að leysa málin,“ segir Ania. Þau fara til Póllands á hverju ári og reyna eftir fremsta megni að halda góðu sambandi við fjölskyldu og vini í Póllandi sem koma líka í heimsókn til Íslands. Ania heyrir daglega í mömmu sinni á Skype og segir það dýrmætt, þó svo að samtölin séu stundum stutt og þær deili helstu fréttum. „Síminn hringir yfirleitt nokkrum mínútum eftir að við komum heim og það er
Marcin hefur unnið hjá Idex gluggum í Njarðvík í átta ár og líkar vel og kveðst alltaf hlakka til að mæta í vinnuna að loknu helgarfríi.
alltaf gott að heyra í mömmu,“ segir Ania.
Hlakkar alltaf til að mæta í vinnuna
Bróðir Marcin, sem taldi hann á að flytja til Íslands á sínum tíma, er fluttur aftur heim til Póllands. Marcin hefur unnið á sama staðnum, hjá Idex-gluggum í Njarðvík í yfir átta ár. „Þegar ég byrjaði kunni ég varla neitt en nú er ég yfirmaður fimm manna svo það er töluverð ábyrgð. Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt og starfið er mjög fjölbreytt. Á sunnudagskvöldum hlakka ég til að mæta í vinnuna á mánudagsmorgni og þannig á þetta að vera.“ Marcin og vinnufélagar hans hafa til að mynda smíðað glugga í viðbyggingar á flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli og segir hann alltaf gaman að sjá gluggana í húsum þegar verkið er tilbúið.
Annað sjónarhorn á lífið
Eins og áður sagði eru Ania og Marcin frá Suður Póllandi. Marcin segir ljóst að þau gætu ekki haft það eins gott og þau gera ef þau byggju þar. Hann segir brauðstritið erfiðara í suður Póllandi en annars staðar í landinu og tekur föður sinn sem dæmi. Hann hefur alla tíð starfað í kolanámu, stundum á fimm hundruð metra dýpi við erfiðar og jafnvel hættulegar aðstæður. „Ég get ekki hugsað mér þannig líf enda á ég tvo syni og vil vera til staðar fyrir þá. Við gætum ekki átt svona stórt hús í Póllandi og ég hugsa að þá ættum við frekar eitt barn en tvö. Ég held að við þyrftum líka að vinna miklu meira, jafnvel tólf tíma á dag, alla virka daga.“ Ania og Marcin eru sammála um að hver og einn sjái heiminn út frá sinni reynslu og því ef til vill skiljanlegt að Íslendingar séu ekki allir jafn sáttir og
þau við lífskjörin hér á landi. „Kannski væri gott að senda ungt fólk á Íslandi til Póllands eða Litháens í eitt ár. Eftir það myndi fólk skilja betur hvað það hefur það gott á Íslandi,“ segir Marcin og brosir. „Við höfum búið í Póllandi og þekkjum vel til þar svo að við höfum samanburðinn. Fyrir okkar er lífið hérna betra en auðvitað söknum við fólksins okkar í Póllandi. Til dæmis á bróðir minn tvö börn sem ég hitti allt of sjaldan og þegar amma mín féll frá komst ég ekki að kveðja hana. Þær stundir eru alltaf erfiðar,“ segir Ania.
Vilja ekki að börnin verði túlkar foreldranna
Bæði Ania og Marcin tala reiprennandi íslensku og segjast hafa lært mest af því að spjalla við íslenska vinnufélaga. Til að byrja með fóru þau á
fimmtudagur 22. desember 2016 nokkur íslenskunámskeið. „Það tók okkur langan tíma að læra íslenskuna og fyrstu þrjú til fjögur árin á Íslandi þá töluðum við ensku. Svo fæddist eldri strákurinn og fór í leikskóla og lærði íslensku og auðvitað vildum við skilja það sem hann sagði og líka hvað var að gerast þar. Núna er eldri strákurinn okkar í 1. bekk og er að læra að lesa og skrifa sögur og við lærum íslensku líka með honum. Það er erfitt að læra nýtt tungumál en ég held að þeir sem virkilega vilji læra íslenskuna geti það,“ segir Ania. Marcin segir Íslendinga alltaf hafa verið jákvæða þegar hann var að reyna að tala íslensku í byrjun. „Ég fór bara í bankann og á pósthúsið og talaði við fólk á íslensku. Ég hef engar áhyggjur af því að ruglast, stundum skilur fólk mig ekki strax en það er allt í lagi.“ Ania segir að fæðing eldri sonarins hafi ýtt við þeim að læra íslensku enda gátu þau ekki hugsað sér að hann myndi þurfa að túlka fyrir þau þegar hann yrði eldri. Fjölskyldan talar yfirleitt saman á pólsku heima og horfir saman á barnaefni á pólsku. „Stundum eftir langan dag í skóla og á íþróttaæfingu þá spyr sá eldri hvort hann geti ekki bara sagt okkur frá einhverju atviki á íslensku og þá er það auðvitað í lagi,“ segir Ania.
VÍKURFRÉTTIR
Kannski væri gott að senda ungt fólk á Íslandi til Póllands eða Litháens í eitt ár?
Ania hefur starfað hjá matstofunni Réttinum frá því fyrirtækið var stofnað fyrir tæplega átta árum og er vaktstjóri þar.
Bæði pólskir og íslenskir jólasveinar
Í Póllandi tíðkast að borða ekki kjöt á aðfangadag, heldur fisk, súrsað kál, sveppi og fleiri smárétti og heldur fjölskyldan jólin að pólskum sið. Þar tíðkast líka að bíða eftir að fyrsta stjarnan sjáist á himni og setjast þá við matarborðið. Það er reyndar erfitt að halda í þá hefð á Íslandi þar sem oft er lélegt skyggni í vetrarhörkum í desember. Ania og Marcin halda alltaf upp á jólin með pólskum vinum sem búa í Reykjavík. Fjölskyldurnar skiptast á að bjóða heim til sín á aðfangadagskvöld. „Þau eru í sömu stöðu og við og eiga ekki fjölskyldu á Íslandi. Við erum eiginlega orðin eins og fjölskylda og það er gaman að halda saman upp á jólin, sérstaklega eftir að börnin fæddust,“ segir Marcin. Synirnir Alex og Kacper fá í skóinn frá íslensku jólasveinunum og hittu líka þann pólska 6. desember en sá dagur er jólasveinadagurinn í Póllandi. Þá kemur jólasveinn heim til fólks, spjallar við börnin og gefur þeim pakka.
Komin með íslenskan hugsunarhátt
Ania og Marcin eru sammála um að hugsunarháttur Íslendinga og Pólverja sé að sumu leiti ólíkur. Þau útskýra það þannig að vegna þess lífsbaráttan sé erfið í Póllandi láti fólk það ganga fyrir að vinna, ekki endilega til að kaupa sér fallega hluti heldur til að þess að lifa af. „Þessi hugsun er einfaldlega í blóðinu,“ segja þau. Eftir áramót ætlar Ania að hefja nám í förðun við Reykjavík Make-up School og hlakkar mikið til. „Ég er pínu stressuð að skilja ekki allt sem verður sagt á námskeiðinu en þetta verður alveg örugglega gaman. Mig langar að breyta til og gera eitthvað fyrir sjálfa mig. Það væri gaman að geta tekið að sér að farða fólk fyrir sérstök tilefni. Ætli þetta sé ekki hluti af því að hugsunarhátturinn okkar er búinn að breytast og orðinn meira eins og hjá Íslendingum, að kunna líka að njóta lífsins.“
duus@duus.is - Sími 421 7080
Skötuhlaðborð á Þorláksmessu frá kl. 12 - 14.30 og kl. 18 - 22 Skata Kartöflur Kæst skata Kartöflusalat Saltfiskur Rúgbrauð Smjör Hangiflot Hnoðmör Harðfiskur Hákarl Hamsatólg Plokkfiskur Rófur Sjávarréttagratín Síldarþrenna Laufabrauð Bayonnes skinka Hangikjöt með uppstúf Verð pr. mann að kvöldi kr. 4.250,Verð pr. mann í hádegi kr. 3.500,-
Börn yngri en 12 ára 1.600,Borðapantanir í síma 421 7080 eða duus@duus.is
Gleðileg jól og farsælt komandi ár! Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
63
64
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. desember 2016
Súsanna að kyssa fílinn Three. „Fílinn var klárlega uppáhalds dýrið mitt í Glen Afric og finnst mér þeir vera ein mögnuðustu dýr sem til eru.“
Sjálfboðastarf
Súsönnu í Suður-Afríku ●●Súsanna Edith Guðlaugsdóttir vann með börnum sem búa við mikla fátækt ●●Starfaði líka í dýraathvarfi fyrir munaðarlaus og slösuð dýr Hildur Björk Pálsdóttir hildur@vf.is
Þrettán ára gömul ákvað Súsanna Edith Guðlaugsdóttir að einn daginn færi hún til Afríku að hjálpa börnum. Í fyrra lét hún verða af því og fór til Höfðaborgar í Suður-Afríku í eins konar samfélagsþjónustu þar sem hún vann með börnum sem bjuggu við erfiðar aðstæður og mikla fátækt. Hún fór einnig til Jóhannesarborgar og vann í dýraathvarfi fyrir munaðarlaus og slösuð dýr, en hún segir þá reynslu hafa gert sér enn betri grein fyrir mikilvægi dýraverndar. „Ég man eftir að hafa horft á þátt um styrktarforeldra Unicef og verið mjög hissa á að foreldrar mínir væru ekki styrktarforeldrar. Ég tók málið í mínar hendur og hringdi inn fyrir hönd foreldra minna.“ Hún ákvað þá að hún skyldi einhvern tímann fara til Afríku og láta gott af sér leiða. Undir lok framhaldsskólagöngunnar, þegar flestir voru að safna fyrir útskriftarferð safnaði Súsanna fyrir ferðinni til Afríku, en hana hafði hún skipulagt í samstarfi við ferðaskrifstofuna Kilroy. Súsanna valdi verkefnið „Heart for juniors Noordhoek“ sem er á vegum You 2 Africa samtakanna og er staðsett í Noordhoek, í um 40 mínútna fjarlægð frá Höfðaborg. „Verkefni okkar var að aðstoða börn á aldrinum 1 til 15 ára með að læra ensku, lesa og leika sér ásamt því að sýna þeim ást og
umhyggju. Við byrjuðum alla morgna í bænum Ocean View, þar sem okkur var skipt niður á mismunandi verkefni. Það virkaði þannig að þeir sem voru lengst fengu yfirleitt erfiðustu verkefnin því það var mikilvægt að kynnast krökkunum og aðstæðunum vel. Verkefnin voru mjög misjöfn en mitt var að mæta á leikvöll á hverjum morgni sem er í miðju hverfinu og rölta í kringum hann til að finna þau börn sem komust ekki í skólann og voru þau á aldrinum 7 til 15 ára. Við lögðum mikið upp úr því að hafa alltaf gaman, fara í leiki, á bókasafnið að lesa eða kæla börnin niður með vatnsslöngum þegar það var alltof heitt úti. Mikið var haft upp úr því að halda börnunum uppteknum til að koma í veg fyrir að þau færu í slæman félagsskap.“
Foreldrarnir þakklátir
Sjálfboðaliðunum var bent á að koma ekki með verðmæti með sér þar sem foreldrar og eldri systkini margra barnanna hafa þjálfað þau til að stela öllu sem þau koma höndum yfir. „En með tímanum kynntumst við börnunum, lærðum nöfnin þeirra og fórum í heimsókn heim til þeirra þar sem við sáum aðstæðurnar sem þau bjuggu við. Það var gaman að sjá hve þakklátir foreldrar þeirra voru,“ segir Súsanna. Seinni part dags fóru sjálfboðaliðarnir í bæinn Masiphumelele og var verkefni Súsönnu þar að fara í svokölluð „wetlands,“ eða hverfi með moldarkofum, engu rafmagni né
rennandi vatni og vera til staðar fyrir börnin sem búa þar. „Við vorum með tvo kofa. Í öðrum þeirra voru ungabörn og í hinum voru munaðarlaus börn á aldrinum 1 til 5 ára. Þegar ég kom þangað fyrst fékk ég létt hjartaáfall. Börnin höfðu eina fóstru en hún svaf allan daginn og þegar börnin reyndu að ná athygli hennar þá lamdi hún þau. Hún talaði ekki ensku svo við gátum ekki talað við hana né börnin. Ég og önnur stelpa í hjálparstarfinu töluðum við samtökin og útskýrðum að okkur þætti erfitt að horfa upp á þetta. Börnin fengu nýja fóstru sem talaði örlitla ensku og var tilbúin að vinna með okkur. Hvert verkefni hafði svokallaða ömmu sem allir kalla „mama,“ líka sjálfboðaliðarnir. Mama, ásamt fóstrunni sáu um að skipta á börnunum og hlúa að þeim ef þau slösuðu sig, en um 40 prósent íbúa bæjarins eru smituð af HIV. Í Masiphumelele, eða Masi eins og hann er kallaður, er einungis talað tungumálið Xhosa, svo við lögðum mikið upp úr því að kenna krökkunum að syngja lög á ensku, telja upp á tíu og læra um litina og dýrin. Áður en við komum héngu börnin inni í kofanum allan daginn og sum þeirra fengu ekkert að borða. Í framhaldi af því ákváðum við að byrja alla daga á því að syngja höfuð, herðar, hné og tær ásamt alls konar litaleikjum. Við fórum með börnin á leikvelli á hverjum degi til að leyfa þeim að fá útrás svo allir væru vel þreyttir fyrir lúr dagsins. Um leið og við sáum að sum barnanna
Súsanna með Ashalele, eins árs, sofandi í fanginu í Masi. „Ég náði vel til Ashalele en hún og tvíburasystir hennar eru báðar mjög veikar af nýrnasjúkdóm.“
fengu ekki að borða ákváðum við að byrja að smyrja nesti fyrir alla. Eitt af því sem við áttum mest erfitt með að meðtaka var að það voru engin klósett, enginn klósettpappír og flest barnanna voru aðeins með eina taubleyju allan daginn. Við reyndum að venjast þessu en enduðum á því að koma með klósettpappír með okkur á hverjum degi. Þar sem ég og sjálfboðaliðinn með mér í verkefninu vorum þarna í einn og hálfan mánuð langaði okkur að gera eitthvað meira. Við til dæmis máluðum kofann að innan, keyptum borð og stóla ásamt því að
útbúa blöð með litum, dýrum, tölum og líkamanum sem hengd voru upp á vegg. Þetta hjálpaði okkur mikið við að kenna krökkunum líkamsparta og liti. Við ákváðum einnig að kaupa klósett og borga fyrir að leggja lagnir sem kostaði okkur litlar 15 þúsund krónur íslenskar.“
Skotárás á leikvelli
Súsanna dvaldi með hinum sjálfboðaliðunum í bænum Kommetjie í húsi sem hún segir líta að vissu leyti út eins og húsin á Íslandi nema þau eru opin, og bjóða því dýrum eins og slöngum,
fimmtudagur 22. desember 2016 rottum, kakkalökkum og köngulóm í heimsókn. Hún vaknaði eitt skipti með kakkalakka á hálsinum og rakst stundum á rottur í herberginu sínu, sem henni fannst allt í lagi þangað til hún var komin aftur til Íslands og áttaði sig betur á hlutunum. Aðspurð um muninn á borginni og fátæku smábæjunum segir hún það tvennt ólíkt og stéttaskiptingu mikla. „Ocean View er bær staðsettur í fjalli með íbúðarblokkum en engu rafmagni eða rennandi vatni, þar sem ríkið vill ekki styrkja svæðið. Bærinn varð til árið 1968 þegar ‘litað’ fólk var fjarlægt frá svokölluðum ‘hvítum’ svæðum í Höfðaborg. Heilu fjölskyldurnar búa saman í litlum íbúðum þar sem fjölskyldumeðlimir þurfa að skiptast á að sofa yfir sólarhringinn. Bærinn einkennist af ofbeldi og þjófnaði. Masi er mun fátækari bær en hann skiptist í tvennt, hús byggð úr steypu og svo álkofar í mold eða í mýrinni, ‘wetlands.’ Inni í kofunum eru bara rúm og þarf fólk því að notast við almenningssalerni sem eru kamrar og einn krani með rennandi vatni. Ég mun seint gleyma því þegar Mama bauð okkur inn til sín á meðan við biðum eftir farinu okkar heim. Hún átti fimm börn og kofinn hennar var álíka stór og þvottahús í hefðbundnu húsi á Íslandi. Þar hafði hún eitt rúm fyrir þau öll saman, tvo stóla, bolla og bala.“ Þetta var vissulega ekki eina atvikið sem mun seint renna henni úr minni, en skotárás átti sér stað á leikvellinum þar sem hún vann um miðjan dag. „Í þessu hverfi býr ein hættulegasta mafía Höfðaborgar. Einn daginn vorum við að leika við börnin og heyrum foreldrana skyndilega kalla þau inn. Við skildum ekkert hvað var að gerast þar til eitt foreldrið útskýrir fyrir okkur að þetta sé reglulegur atburður. Þá lenti ungum krökkum saman og skotárás braust út í kjölfarið. Í dag er sjálfboðastarf ekki lengur leyft á þessu svæði,“ segir Súsanna. Annað sem hún rifjar upp er eitt skiptið þegar hún var að finna bók til að lesa fyrir börnin. Hún tók nokkrar bækur úr hillunni og sá svo fimm kakkalakka inni í einni þeirra. „Ég stökk á fætur og öskraði og allir horfðu á mig. Ég áttaði mig á því að þetta væri ekki rétti staðurinn til að öskra yfir kakkalakka og reyndi að halda „kúlinu“ frá og með þessum tímapunkti ferðarinnar.“
Hugsaði um ljón, gíraffa og fíla
Hinir sjálfboðaliðarnir komu frá hinum ýmsu Evrópulöndum auk Ástralíu og Brasilíu. Öll voru þau að ferðast ein svo þau kynntust hvert öðru og heldur Súsanna reglulegu sambandi við tvær þýskar vinkonur í dag. Hún kveðst hafa verið stressuð fyrir því að fara ein út þar sem hún hafði aldrei ferðast ein áður, og fyrir því að þurfa að tala ensku. „Um leið og ég kom út og hitti hina sjálfboðaliðana þá hætti ég að vera stressuð því öllum fannst þeir vera lélegir í ensku. Það fyrsta sem ég gerði var að kaupa símkort og ótakmarkað gagnamagn til að vera í sambandi við fjölskylduna og til að auka öryggi. Það var alltaf nóg að gera og við nýttum frítíma okkar vel í alls kyns skemmtanir. „Við höfðum öll kvöld laus ásamt helgunum en þá skoðuðum við okkur um, fórum í brimbrettakennslu, skipulagða ferð um strendur Höfðaborgar og svo voru samtökin dugleg að skipuleggja lautarferðir þar sem kvöldmaturinn var borðaður undir berum stjörnuhimni og söng.“
65
VÍKURFRÉTTIR
Súsanna og Jack, eini sebrahesturinn sem hægt var að snerta og tala við. „Jack átti erfiða æsku, var lagður í einelti og ólst upp með ösnum.“
Súsanna með Ashalele á bakinu
„Þá keyrðum við bíl með pallinn fullan af mat og lokkuðum dýrin til okkar, svo þegar kom að athöfninni voru dýrin öll í bakgrunni.“ Súsanna fór svo í sjálfboðavinnu í dýraathvarfinu Wildlife Sanctuary í Glen Afric, sem er staðsett á 750 hektara svæði sem tilheyrir svokallaðri Vöggu mannkynsins, eða The Cradle of Humankind, en það er á heimsminjalista UNESCO. Svæðið er vaktað að nóttu til þar sem trúarbrögð í Afríku eru mjög sterk og trúa sumir því að lækna megi veikindi með vissum líkamspörtum af dýrum. Stuttu áður en Súsanna kom í athvarfið hafði einhverjum tekist að brjótast inn á svæðið og skera hornið af nashyrningi, sem drapst í kjölfarið. Í athvarfinu er tekið á móti munaðarlausum og meiddum dýrum og þeim veitt aðhlynning á meðan þau ná sér af þeim áföllum sem þau hafa orðið fyrir. Mikið var af kattardýrum og öðrum villtum dýrum eins og gíröffum, sebrahestum, nashyrningum, flóðhestum, ösnum, antilópum og vörtusvínum. Sum dýrin hafa hins vegar ekki þann möguleika á að vera sleppt lausum þar sem þau eru ekki vön því og kunna því ekki að bjarga sér í náttúrunni, eins og til dæmis dýr sem bjargað er frá sirkusum og dýragörðum. Það voru meðal annars fílar, ljón, tígrisdýr, híenur og blettatígrar.
Brúðkaup í skóginum
„Verkefni okkar sjálfboðaliðanna voru meðal annars að þrífa aðstöðuna hjá dýrunum og gefa þeim að borða. Við fórum í göngur með sum þeirra og fengum að vera með þeim dýrum sem voru vön fólki. Hefðbundinn dagur hjá fílunum inniheldur langa göngu frá sjö um morguninn til sjö að kvöldi í fylgd með þremur manneskjum. Svo var alltaf eitthvað skemmtilegt á dagskrá. Reglulega voru bókuð brúðkaup í miðjum skóginum. Þá keyrðum við bíl með pallinn fullan af mat og lokkuðum dýrin til okkar, svo þegar kom að athöfninni voru dýrin öll í bakgrunni.“ Spurð út í framtíðar ferðaplön segist Súsanna vilja kynnast Afríku betur og stefnir að því að heimsækja önnur lönd heimsálfunnar. „Ég hef áhuga á að sinna fleiri hjálparstörfum í framtíðinni, hvort sem það verður hér á landi eða annars staðar. Svo er ég að íhuga að fara aftur til Höfðaborgar um næstu jól með vinum. Mig langar að sýna þeim umhverfið sem ég starfaði í, fegurðina og fjölbreytileikann sem Höfðaborg hefur að bjóða og svo má ekki gleyma elsku börnunum.“
Eins og sést eru aðstæður í svokölluðum „Wetlands“ hverfum hrikalegar. Mjög reglulega kviknar í einhverjum kofanna þar sem mikill hiti myndast frá brennandi sólskininu.
Salernisaðstæður í Masi voru ekki góðar.
66
VÍKURFRÉTTIR
Keilisfólk
FÍTON / SÍA
Skrautlegt ■■Starfsfólk Keilis tók þátt í jólapeysudeginum sem haldinn var á dögunum. Var farið í skápa og jólapeysan dregin fram í dagsljósið. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er hópurinn skrautlegur og þeir sem ekki mættu í jólapeysu fengu annað hvort jólasveinahúfu eða rándýran geislabaug.
einföld reiknivél á ebox.is
fimmtudagur 22. desember 2016
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
it e v s m ó lj h la ó j g o r a in Jólasve mæta á Hafnargötuna
Það hefur verið ómissandi þáttur í jólaundirbúningi Betri bæjar í Reykjanesbæ að fá jólasveinana og jólahljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í heimsókn niður í bæ á Þorláksmessu. Jólasveinar munu gefa börnunum nammipoka og halda uppi fjöri og jólastemmningu með jólahljómsveitinni rétt áður en jólin ganga í garð. Opið í verslunum 22. desember til kl. 22:00, Þorláksmessu til kl. 23:00 og á aðfangadag kl. 10:00 - 12:00.
Gleðileg jól í Betri bæ
Stærstu styrktaraðilar jóladaga eru:
fimmtudagur 22. desember 2016
67
VÍKURFRÉTTIR
Óskum öllum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum frábærar viðtökur við jólamarkaði TG raf og glitrandi jólaleiknum okkar.
GS í góðum málum Rekstur Golfklúbbs Suðurnesja gekk vel á árinu sem er að líða en aðalfundur hans var haldinn í golfskálanum í síðustu viku. Í frétt á heimasíðu GS segir að á heildina litið hafi árið 2016 verið gott rekstrarár, sennilega það besta í sögu klúbbsins. Ný gjaldskrá og lagabreytingar voru samþykkt og að lokum var ný stjórn kosin. Stjórn Golfklúbbs Suðurnesja árið 2017 er skipuð eftirfarandi: Jóhann Páll Kristbjörnsson, formaður Björgvin Sigmundsson Georg Arnar Þorsteinsson Guðmundur Rúnar Hallgrímsson
Heiður Björk Friðbjörnsdóttir Hilmar Björgvinsson Johan D. Jónsson Sigurrós Hrólfsdóttir Sveinn Björnsson Tekjur klúbbsins voru 80.899.000 milljónir og jukust um 12% á milli ára. Gjöld klúbbsins voru 77.871,329 milljónir og jukust um 10% á milli ára. Hagnaður af rekstri var um 2.200.000 miljónir. Skuldir klúbbsins lækkuðu á árinu og fóru úr um það bil 19 milljónum í um 15 milljónir eða sem nemur 26% lækkun. Félagafjöldi jókst á árinu og fór í 574 félaga sem er mestur fjöldi frá upphafi.
Sendum íbúum Sandgerðis bestu óskir um
gleðileg jól og farsælt nýtt ár
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
Sendum öllum Suðurnesjamönnum bestu Óskum Suðurnesjamönnum öllum
gleðilegra jóla, árs og friðar
með þökk fyrir árið sem er að líða
jóla - og nýárskveðju, megi árið 2017 verða farsælt og gott ár fyrir okkur öll.
68
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. desember 2016
Keflavík er á toppi Domino’s deildar kvenna. Liðið er skipað ungum leikmönnum sem hafa komið upp úr yngri flokkum liðsins. Á meðal þeirra eru þær Thelma Dís Ágústsdóttir, Emelía Ósk Gunnarsdóttir og Birna Valgerður Benonýsdóttir en þær hafa spilað stórt hlutverk í leik liðsins á tímabilinu. Allar hafa þær orðið lykilleikmenn umferðarinnar og vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á tímabilinu. Þær æfa allt að fimm sinnum í viku ásamt því að stunda lyftingar. Við fengum þessar efnilegu og ungu stelpur til þess að svara nokkrum spurningum.
„TELJUM OKKUR ALVEG GETA
AXLAÐ ÞESSA ÁBYRGГ
●●Höfum komið mörgum skemmtilega á óvart l Frábær liðsheild sem nær vel saman Emelía Ósk Gunnarsdóttir
hefur spilað með U15, U16, U18 á yngra ári og eldra og Alandsliðinu. Hún er 18 ára og byrjaði að æfa körfu 7 ára, áhuginn kviknaði af því að bróðir hennar æfði og hana langaði að prófa. Erfiðasti andstæðingurinn er Snæfell. „Mér finnst mjög gaman að spila í meistaraflokki og ennþá skemmtilegra að vera með svona stórt hlutverk í þessum flokki. Tímabilið hefur byrjað mjög vel og skemmtilega og við höfum komið mörgum skemmtilega á óvart.“ Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? How the Grinch Stole Christmas kemur mér í jólaskapið. Uppáhalds jólalag? Uppáhalds jólalagið er Snjókorn falla Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Það hefur alltaf verið hefð að krakkarnir á heimilinu skreyti tréð. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Eftirminnilegasta jólagjöfin er uppblásna kórónan mín. Hvað er í matinn á aðfangadag? Á aðfangadag eru rjúpur í matinn en við systurnar borðum ekki rjúpu svo við fáum oftast hamborgarahrygg. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Þegar ég er búin í prófum og það er byrjað að snjóa þá eru jólin komin. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Ég man ekki eftir því hvernig ég brást við leyndarmáli jólasveinsins. Hvernig verð þú jóladegi? Á jóladegi er morgunganga með fjölskyldunni og seinna um daginn förum við í jólaboð.
Birna Valgerður Benonýsdóttir
er 16 ára og spilar með unglingaflokki og meistaraflokki. Hún hefur verið þrisvar sinnum í landsliði, U15 árin 2014 og 2015 og U16 árið 2016 og var einnig valin í 15 manna æfingahóp Alandsliðsins fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni EuroBasket í haust. „Ég byrjaði að æfa í fyrsta bekk, vegna þess að mamma mín spilaði einhvern tíma og mér fannst þetta rosalega spennandi. Í yngri flokkunum var það alltaf Grindavík hjá mér, en núna eru öll liðin frekar jöfn bara. Mér finnst mjög gaman að fá tækifæri til þess að spila í efstu deild, frábær hópur og mjög skemmtilegt að spila með öllum þessum stelpum. Þetta er fyrsta tímabilið mitt í meistaraflokki og deildin hefur alveg staðist mínar væntingar.“ Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Harry Potter maraþon er klassískt um hátíðarnar, kemur mér alltaf í hátíðarskap. Uppáhalds jólalag? Ég bara hef ekki hugmynd. Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Amma og afi koma alltaf til okkar á aðfangadag og við borðum hamborgarahrygg saman, svo jólaboðin hjá fjölskyldunni. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ég fékk gallabuxur frá mömmu og pabba einhvern tíma fyrir löngu. Þær eru eiginlega ógleymanlegar. Hvað er í matinn á aðfangadag? Hamborgarahryggur. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Þegar allir eru byrjaðir að borða á aðfangadag. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Hvaða leyndarmáli??? Hvernig verð þú jóladegi? Uppi í sófa í náttfötum að horfa á myndir með fjölskyldunni og borða nammi.
Sjónvarpsþættir: One Tree Hill.
Sjónvarpsþættir: Ætli það sé ekki SKAM.
Kvikmynd: Love and Basketball.
Kvikmynd: Það eru alltof margar.
Hljómsveit/tónlistarmaður: Zara Larsson.
Hljómsveit/tónlistarmaður: Þeir eru einnig rosalega margir.
Leikari: Jim Carrey.
Leikari: Johnny Depp hefur alltaf verið í uppáhaldi.
Skyndibiti: Saffran og Serrano.
Skyndibiti: Ætli það sé ekki Villi bara.
Tónlist í laumi: River Flows in You.
Tónlist í laumi: Tónlist frá ’00 er lúmskt góð stundum.
Hver myndi vinna í 21? Thelma myndi pottþétt vinna í 21.
Hver myndi vinna í 21? Thelma Dís.
Thelma Dís Ágústsdóttir
er 18 ára og spilar með unglinga- og meistaraflokki Keflavíkur. Hún hefur spilað með U15, U16, U18 ára landsliðum Íslands og nú síðast tvo landsleiki með A-landsliðinu. Hún byrjaði að æfa 5 ára en móðir hennar var í körfu og fór með hana á fyrstu æfinguna. Upp yngri flokkana voru Haukar alltaf erfiðasti andstæðingurinn en í meistaraflokki er það Snæfell. „Mér finnst bara gaman að fá svona stórt hlutverk á þessu tímabili. Þetta er fjórða tímabilið okkar Emelíu í meistaraflokki og við teljum okkur alveg geta axlað þessa ábyrgð. Tímabilið er búið að vera mjög skemmtilegt, enda er okkur búið að ganga mun betur en búist var við af okkur. Það er skemmtilegt á æfingum, við erum frábær liðsheild sem nær vel saman og ekki má gleyma þjálfurunum og kvennaráðinu sem eru að standa sig gríðarlega vel,“ segir Thelma. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Elf er uppáhalds jólamyndin mín og kemur mér yfirleitt í mikið jólaskap. Uppáhalds jólalag? Kósýheit par exelans með Baggalút er uppáhalds jólalagið. Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Rétt fyrir jól fer ég bíltúr og ber út jólakort fyrir fjölskylduna með frænkum mínum. Fjölskyldan fer líka alltaf í jólaboð til ömmu og afa. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Eftirminnilegasta jólagjöfin er örugglega sjónvarp sem ég fékk frá mömmu og pabba fyrir tveimur árum og þurfti að leita að því út um allt hús. Hvað er í matinn á aðfangadag? Við borðum alltaf hamborgarhrygg á aðfangadag. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Mö m mu k ö k u r n a r hj á ömmu og skinkuhornin hennar mömmu koma með jólin. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Ég var svolítið svekkt en sagði mömmu og pabba ekkert frá því þegar ég komst að leyndarmálinu um jólasveininn þannig að ég hélt áfram að fá í skóinn í nokkur ár. Hvernig verð þú jóladegi? Náttföt, hangikjöt og NBA einkenna jóladag.
Sjónvarpsþættir: Núna er ég að klára Person Of Interest sem eru mjög góðir. Ég held samt að það sé ekkert að fara að toppa Friends.
Kvikmynd: Stella í Orlofi. Hljómsveit/tónlistarmaður: Beyoncé. Leikari: Will Smith. Skyndibiti: Langbest. Tónlist í laumi: Mér finnst ABBA lögin alltaf góð. Hver myndi vinna í 21? Úff, ég veit ekkert hver myndi vinna í 21. Ætli við þurfum ekki bara að taka leik?
fimmtudagur 22. desember 2016
69
VÍKURFRÉTTIR
Jói „drummer“ stjórnaði Víkingaklappi á íþróttahátíð BBC Keflvíkingurinn Jói „drummer“ eða Jóhann D. Bianco sló trommuna í Víkingaklappinu ásamt einum félaga sínum úr Tólfunni á heiðursverðlaunahátíð á vegum BBC í Englandi en þá er m.a. íþróttamaður ársins valinn. Tólfan fór sem kunnugt er á kostum á Evrópumótinu í knattspyrnu í sumar. Tvímenningarnir fóru sem fulltrúar Tólfunnar til að stýra Víkingaklappinu á hátíðinni. Eins og flestir muna niðurlægðu Íslendingar þá ensku í 16 liða úrslitum EM í sumar með 2-1 sigri. Jóhann var í essinu sínu á íþróttahátíð BBC og náði gestum á hátíðinni með í fjörið. Hér fyrir neðan er okkar maður á mynd með fyrrum knattspyrnugoðinu Gary Lineker en hann er sjónvarpsmaður hjá BBC og einn þeirra sem var í þessari útsendingu. Einn gesta sem tók vel undir í Víkingaklappinu var enginn annar en Vilhjálmur prins.
ATVINNA
FRAMKVÆMDASTJÓRI KNATTSPYRNUDEILDAR KEFLAVÍKUR Knattspyrnudeild Keflavíkur auglýsir starf framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Keflavíkur laust til umsóknar. Framtíðarsýn knattspyrnudeildar er að vera áfram í fremstu röð knattspyrnuliða á Íslandi. Mjög öflugt uppbyggingarstarf er hjá Keflavík og fjöldi iðkenda. HELSTU VERKEFNI FRAMKVÆMDASTJÓRA • Stjórnun og ábyrgð á rekstri deildarinnar • Kemur að fjáröflun í samvinnu við stjórn • Samskipti við aðila innan og utan deildar
HÆFNISKRÖFUR: • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Dugnaður og frumkvæði • Reynsla í stýringu fjármála • Þekking á íþróttahreyfingunni • Góð tök á íslensku máli • Góð tök á notkun samfélagsmiðla
Nánari upplýsingar veita Ingvar Georgsson 899 0557 starfandi framkvæmdastjóri eða Jón Ben formaður í síma 699 5625 eða á netfangið jben@internet.is Umsókn og fylgiskjöl sendist á kef-fc@keflavík.is Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2017.
! h Hu
16 20 16 20 16 20 16 20
tta rfrétta Víkurfré leikurrVíku miðaleiku Skafmiða tta rfrétta Skaf Víkurfré jum rnes leikur Suðu ár miða lana Skaf jum verslana Víku rnes ogmiða Suðu leiku áSuðu jum vers Skaf rnesjum og lanaááSuðu og verslana rnes og vers
NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA SÍÐASTI ÚTDRÁTTUR
24. DESEMBER
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
Hótel Grásteinn ehf
Hársnyrtistofan Kamilla
Skipting ehf
70
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 22. desember 2016
SÚPUMÓT í Sandgerði í sultublíðu í desember
Þrjátíu og fimm áhugasamir kylfingar mættu í opið „súpumót“ Golfklúbbs Sandgerðis í blíðunni sunnudaginn 4. des. sl.Sandgerðingurinn Sveinn H. Gíslason lék sannkallað sumargolf og sigraði með 28 punktum eftir 12 holur. Þó svo það hafi ekki verið hægt að hefja leik fyrr en kl. 10.30 á sunnudagsmorgun vegna myrkurs var Kirkjubólsvöllur enn í nettum sumarbúningi, kannski aðeins gulari annars mjög fínn. Leikið var inn á sumarflatir og slegið af flestum sumarteigum. Svo spígsporuðu breitt brosandi kylfingar um völlinn eins og beljur að vori og voru að leika golf í 7-8 stiga hita og nánast logni. Dagsetningin var 4. des. Gat þetta verið? Eftir hring var boðið upp á sveppasúpu að hætti Sandgerðinga. Eins og fyrr segir sigraði Sveinn en í 2. sæti var Stefán Arnbjörnsson á 24p. og þriðji var Grétar Agnarsson, líka með 24. Atli Þór Karlsson, gjaldkeri GSG var ánægður með þátttökuna og sagði klúbbinn frægan fyrir vetrarmótin. Hann var líka ánægður með gang mál á nýafstöðu sumri. Þó klúbburinn væri lítill gengi reksturinn þar sem skuldir væru litlar og félagar áhugasamir og hjálpsamir. „Við viljum vera góður lítill klúbbur. Hér koma nokkrir kylfingar í öllum veðrum og leika golf allt árið og það er bara skemmtilegt,“ sagði Atli.
Góð þátttaka í jólaskákmóti ■■Glæsilegt Jólaskákmót var haldið í fimmta sinn á vegum Samsuð og Krakkskákar 17.desember síðastliðinn. Mótið var haldið í Gerðaskóla og mættu 48 keppendur til leiks. Þeir voru úr flestum bæjarfélögum á Suðurnesjum. Grindvíkingar, Njarðvíkingar og Garðbúar voru fjölmennastir þátttakanda. Nettó gaf glæsilega happdrættisvinninga í lok mótsins eins og vanalega á þessu skákmóti. Keppnin var spennandi allt fram á síðustu stundu. Sigurvegarar í yngri flokki stúlkna: 1. Svanhildur Róbertsdóttir, Grindavík 2. Birta Eiríksdóttir, Grindavík 3. Ólöf Bergvinsdóttir, Grindavík Þær eru einnig núverandi Íslandsmeistarar í liðakeppni grunnskóla yngri stúlkur.
Reykjanesbæ Hjörtur Líndal Jónsson, Garði
Sigurvegarar í yngri flokki pilta: Sigurður Bergvin Ingibergsson, Grindavík Andrés Kristinn Haraldsson,
Sigurvegarar í eldri pilta: Sólon Siguringason, Reykjanesbær Hjörtur Jónas Klemensson, Grindavík Róbert Birmingham, Reykjanesbær
Sigurvegarar í eldri stúlkur: Nadía Arthúrsdóttir, Grindavík Lovísa Ólafsdóttir, Sandgerði Aþena Rún Helgadóttir, Sandgerði
fimmtudagur 22. desember 2016
71
VÍKURFRÉTTIR
Börðust við MMA kappa í Montreal ■■Á dögunum héldu tveir þjálfarar Keflavíkur í bardagaíþróttum til Bandaríkjanna á námskeið í barna- og unglingaþjálfun. Hnefaleikaþjálfarinn Björn Björnsson og Tae Kwon Do/BJJ þjálfarinn Helgi Rafn Guðmundsson fóru í frægðarför þar sem þeir heimsóttu í leiðinni meðal annars frægasta MMA æfingasal í heimi (Tristar MMA gym í Montréal í Kanada) og tókust þar á við MMA kappa. Það voru þeir Alex Garcia og Joe Duffy, einn af fáum mönnum sem hefur sigrað Conor McGregor. Helgi og Björn stefna á að setja á fót MMA námskeið strax í janúar á Suðurnesjum. Þjálfararnir segja að á heildina litið hafi þessi reynsla verið þeim mjög góð og ferðin ánægjuleg.
Þrír reynsluboltar yfirgefa Keflavík ●●Haraldur og Magnús Sverrir hættir Þrír af reyndustu leikmönnum Keflvíkinga í karlafótboltanum munu ekki leika með liðinu á næsta tímabili. Eins og áður hefur verið greint frá þá hefur Haraldur Freyr Guðmundsson lagt skóna á hilluna en Magnús Sverrir Þorsteinsson mun einnig ganga frá skónum í skápinn góða. Þá mun Magnús Þórir Matthíasson ekki leika áfram með liðinu en ekki er ljóst hvort eða hvar hann mun leika á næsta tímabili. Frá þessu er greint á heimasíðu Keflavíkur. Samtals eiga þessir leikmenn að baki 39 leiktímabil og tæplega 900 leiki með meistaraflokki Keflavíkur. Haraldur hefur leikið 200 deildarleiki með Keflavík og skorað í þeim átta mörk. Auk þess hefur hann leikið 27 bikarleiki og skorað fimm mörk og 78 leiki í deildarbikarnum og þar eru mörkin þrjú.
Magnús Sverrir hefur alls leikið 17 tímabil með liðinu en Magnús lék auk þess eitt tímabil með Grindavík. Hann hefur leikið 244 deildarleiki fyrir Keflavík og skorað í þeim 46 mörk, 34 bikarleiki þar sem Magnús hefur skorað tólf mörk og sjö leiki í Evrópukeppnum þar sem eitt mark fylgir með. Leikirnir í deildarbikarnum eru 93 en þar er Magnús leikjahæsti leikmaður Keflavíkur og mörkin í keppninni eru 29. Hann hefur leikið 213 leiki fyrir Keflavík í efstu deild og er þar þriðji leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi. Magnús Þórir hefur leikið 129 deildarleiki fyrir Keflavík og skorað í þeim 18 mörk. Hann hefur einnig leikið 13 bikarleiki og skorað fjögur mörk auk eins leiks í Evrópukeppni og 33 leiki í deildarbikarnum þar sem mörkin eru 12.
Náungakærleikur Njarðvíkinga ●●Styrktu Fjölskylduhjálp ● og Unicef ■■Stjórn körfuknattleiksdeildar Umfn ákvað að á síðasta heimaleik fyrir jól myndi allur aðgangseyrir fara til góðra málefna nú fyrir jólin. Njarðvíkingar léku þá gegn Þór Þorlákshöfn og var vel mætt. Allir sem lögðu leið sína í Ljónagryfjuna borguðu sig inn, þar á meðal leikmenn beggja liða og dómarar. Ákveðið var að styrkja Unicef sem aðstoðar nú börn í Sýrlandi sem eiga um sárt að binda og Fjölskylduhjálp í Reykjanesbæ. Logi Gunnarsson, fyrirliði Njarðvíkinga, mætti í Fjölskylduhjálp í vikunni og afhenti Önnu Jónsdóttur, verkefnastjóra hjá Fjölskylduhjálp, fjárhæð sem vafalaust kemur að góðum notum.
RAUÐIKROSSINN VERSLUN Við erum með lokað til
11. janúar
Þökkum stuðninginn á árinu og óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla.
Logi Gunnarsson kom færandi hendi í Fjölskylduhjálp í Reykjanesbæ. VF/mynd Eyþór Sæm.
Hlýjar hátíðarkveðjur Kadeco – Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, sendir landsmönnum öllum hlýjar óskir um gleðilega hátíð með þakklæti fyrir árið sem er að líða. Það eru ótal tækifæri í kortunum fyrir Reykjanesið á nýju ári og við munum
PIPAR \ TBWA
PIPA
•
SÍA
halda áfram að efla samfélag og atvinnulíf við alþjóðaflugvöllinn.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar Sími 425 2100 | www.kadeco.is