18-19
Okkar stjarna í Eurovision
SÓLBORG GUÐBRANDSDÓTTIR Í EUROVISION Á LAUGARDAG
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Hjá okkur njóta allir sérkjara af lyfjum utan greiðsluþátttöku
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB og öryrkjar fá 16% afslátt af öllum vörum og lyfjum utan greiðsluþátttöku
Opið: Mánudaga-föstudaga 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00. facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Vetur konungur
með sýningu við Grindavíkurveg!
Erum við tilbúin fyrir íbúafjölgun? - Málþing um þróun íbúabyggðar á Suðurnesjum haldið í Hljómahöll á föstudaginn
Málþing um þróun íbúabyggðar á Suðurnesjum verður haldið í Hljómahöll nk. föstudag. Það er svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja sem boðar til málþingsins þar sem fjallað verður um vöxt á Suðurnesjum í bráð og lengd. Spurt verður spurninga eins og hver sé framtíðarsýn sveitarfélaganna um vöxt og fólksfjölgun á svæðinu til skemmri og lengri tíma og eins til hvaða aðgerða þurfa sveitarfélögin og ríkið að grípa. Til málþingsins er boðið fulltrúum þeirra
stjórnvalda, fyrirtækja og félaga sem gegna lykilhlutverki við ákvarðanatöku um skipulag og þróun íbúðabyggðar á Suðurnesjum. „Við okkur blasir áskorun sem við verðum að taka þátt í að takast á við og leysa í sameiningu. Þess vegna blásum við til þessa málþings til þess að stjórnendur í sveitarfélögunum geri sér grein fyrir að áskorunin er núna á morgun en ekki eftir 10 ár. Við þurfum að bregðast við núna til að bjóða nýja íbúa velkomna til Suðurnesja,“ segir Áshildur Linnet, sem á sæti
í undirbúningsnefnd fyrir málþingið og bætir við: „Það vantar húsnæði og öll sveitarfélögin þurfa að taka þátt í að skipuleggja þá íbúðabyggð sem þarf til að svara kalli fólksins sem hingað er að koma. Það þarf líka að byggja upp innviði samfélaganna samhliða þannig að við getum tekið vel á móti fólki og boðið hingað fólki sem tekur þátt í samfélaginu en er ekki bara til hliðar við samfélagið,“ segir Áshildur. Sjá nánar á síðu 2 í blaðinu í dag.
ÓHÖPP Í BLINDBYL
Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp í því vetrarveðri sem hefur verið að hrella okkur síðustu sólarhringa. Árekstrar hafa verið tíðir og önnur óhöpp vegna hálku og blindbyls. Þannig varð þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut miðja vegu milli hringtorga á Fitjum og við Grænás. Bílar höfnuðu utan vegar, eins og rútan á meðfylgjandi mynd. Engin slys urðu á fólki í þessu slysi. Hins vegar lentu fjórir bílar í árekstri á Njarðarbraut í Njarðvík fyrir síðustu helgi. Þar þurfti fólk að leita til slysamóttöku með áverka eftir áreksturinn. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi
FÍTON / SÍA
AÐALSÍMANÚMER 421 0000
einföld reiknivél á ebox.is
■
AUGLÝSINGASÍMINN 421 0001
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
■
FRÉTTASÍMINN 421 0002
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN fimmtudagskvöld kl. 20 á Hringbraut og vf.is
2
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
PÁLL KETILSSON
Erum við tilbúin?
RITSTJÓRNARPISTILL
Ekki eru nema 3-4 ár síðan að ristjórnarpistlar VF fjölluðu mikið um atvinnuleysi og hvernig mætti ráða bót á því. Í dag er öldin önnur. Á stuttum tíma hefur ástandið gjörbreyst og nú er komin ný áskorun og hún er í stærri kantinum. Hvernig ætlum við að taka á móti vinnuafli sem mun að mestu leyti koma frá útlöndum á næstu árum. Erum við tilbúin? Núna er um fimmtungur íbúa á Suðurnesjum af erlendu bergi brotnir. Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja boðar til málþings í lok vikunnar um um vöxt á Suðurnesjum í bráð og lengd. Hver er framtíðarsýn sveitarfélaganna um vöxt og fólksfjölgun á svæðinu til skemmri og lengri tíma? Til hvaða aðgerða þurfa sveitarfélögin og ríkið að grípa? Fulltrúar fyrirtækja, stjórnvalda og aðila sem gegna lykilhlutverki við ákvarðanatöku um skipulag og þróun íbúðabyggðar mun fjalla um málið. Og því mun ekki ljúka á þessu málþingi. Langt frá því. Þetta er eitt stærsta verkefni samfélagsins á næstu misserum. Í spám Isavia mun störfum fjölga um 400-500 á næstu árum. Margir kinka kolli við þessa spá og segja jákvætt hvað allt sé í syngjandi góðri sveiflu á Suðurnesjum. En málið er flóknara en svo þó svo sumir myndu jafnvel kalla þetta lúxusvandamál. Við á Víkurfréttum höfum að undanförnu hitt forráðamenn fyrirtækja á Suðurnesjum sem hafa marga útlendinga í vinnu og í sumum tilfellum er meirihlutinn útlendingar. Við ræddum líka við nokkra starfsmenn sem koma flestir frá Póllandi en líka annars staðar frá. Lang stærstu atriðin hjá útlendingunum sem margir hafa komið sér vel fyrir á Suðurnesjum, eru húsnæðismálin. Ekki aðeins er húsaleiga há heldur er mikil vöntun á húsnæði. Án efa stærsta málið í þessu verkefni. Það eru fleiri mál sem þeir nefna eins og vöntun á afþreyingu og að samgöngur mættu vera betri. Forráðamenn fyrirtækjanna eru mjög ánægðir með starfsfólkið þó svo það tali ekki íslensku nema í fáum tilfellum. Það mætti vissulega vera hærra hlutfall sem það gerði en margir geti bjargað sér á ensku, sumir skilja þó lítið sem ekkert. Fólkið er að sögn fyrirtækjanna mjög vinnusamt og vilji í mörgum tilfellum vinna meira. Í grein í blaði vikunnar frá forstöðumanni Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum, Hildi Gísladóttur, segir hún að huga þurfi betur að þeim útlendingum sem hingað eru komnir til að vinna, og þjónusta þá betur. Í þessu nýja fjölmenningarsamfélagi á Suðurnesjum þurfi bæði útlendingarnir og atvinnurekendur að gera betur. Starfsmennirnir að bæta tungumálakunnáttuna og atvinnurekendur að kynna sér betur menningarheim starfsfólksins. Áshildur Linnet, bæjarfulltrúi í Vogum sem á sæti í nefnd sveitarfélaganna vegna málþings um þróun íbúabyggðar á Suðurnesjum segir svo frá í VF viðtali : „Það þarf líka að byggja upp innviði samfélaganna samhliða þannig að við getum tekið vel á móti fólki og boðið hingað fólki sem tekur þátt í samfélaginu en er ekki bara til hliðar við samfélagið.“
FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM SUÐURNES - REYK JAVÍK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
HÉR MÁ NÁLGAST VIÐTALIÐ VIÐ ÁSHILDI OG ÓLAF ÞÓR Á VF.IS
Þau Ólafur Þór Ólafsson bæjarfulltrúi í Sandgerði og Áshildur Linnet bæjarfulltrúi í Vogum sitja í undirbúningsnefnd fyrir málþingið.
Nýir íbúar taki þátt í samfélaginu en séu ekki til hliðar við það - Málþing um þróun íbúabyggðar á Suðurnesjum haldið í Hljómahöll á föstudag Málþing um þróun íbúabyggðar á Suðurnesjum verður haldið í Hljómahöll nk. föstudag. Það er svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja sem boðar til málþingsins þar sem fjallað verður um vöxt á Suðurnesjum í bráð og lengd. Spurt verður spurninga eins og hver sé framtíðarsýn sveitarfélaganna um vöxt og fólksfjölgun á svæðinu til skemmri og lengri tíma og eins til hvaða aðgerða þurfa sveitarfélögin og ríkið að grípa. Til málþingsins er boðið fulltrúum þeirra stjórnvalda, fyrirtækja og félaga sem gegna lykilhlutverki við ákvarðanatöku um skipulag og þróun íbúðabyggðar á Suðurnesjum. Málþingið er sambland af myndbandsinnslögum og erindum sérfræðinga. Þau Ólafur Þór Ólafsson bæjarfulltrúi í Sandgerði og Áshildur Linnet bæjarfulltrúi í Vogum sitja í undirbúningsnefnd fyrir málþingið. „Við okkur blasir áskorun sem við verðum að taka þátt í að takast á við og leysa í sameiningu. Þess vegna blásum við til þessa málþings til þess að stjórnendur í sveitarfélögunum geri sér grein fyrir að áskorunin er núna á morgun en ekki eftir 10 ár. Við þurfum að bregðast við núna til að bjóða nýja íbúa velkomna til Suðurnesja,“ segir Áshildur og bætir við: „Það vantar húsnæði og öll sveitarfélögin þurfa að taka þátt í að skipuleggja þá íbúðabyggð sem þarf til að svara kalli fólksins sem hingað er að koma. Það þarf líka að byggja upp innviði samfélaganna samhliða þannig að við getum tekið vel á móti fólki og boðið hingað fólki sem tekur þátt í samfélaginu en er
ekki bara til hliðar við samfélagið,“ segir Áshildur Linnet. „Við í Sandgerði höfum fundið fyrir miklum vexti síðustu 18-24 mánuði og það er ekkert útlit fyrir að sá vöxtur sé að hætta. Það hægir kannski eitthvað á honum en fólki mun fjölga áfram. Eins og Áshildur segir þá þurfa allir aðilar á Suðurnesjum að koma að þessu verkefni til að taka á móti fólki og til að byggja upp þá þjónustu og það svæði sem við viljum búa á. Ef við bregðumst ekki við sjálf, þá verður hér atburðarás sem við ráðum ekki við. Þá fyrst förum við að finna fyrir vaxtarverkjum sem verða virkilega óþægilegir fyrir okkur hér á svæðinu. Því skiptir máli og við erum að reyna með þessu málþingi að vekja fólk til umhugsunar um að við þurfum að vera klár sjálf í að taka á móti, skipuleggja og gera það sem þarf að gera,“ segir Ólafur Þór Ólafsson. - Eru vaxtarverkirnir ekki þegar mættir? „Jú, við finnum að sjálfsögðu fyrir þeim. Við finnum fyrir því að fólk á erfitt með að finna húsnæði og við finnum fyrir því á leigumarkaði, í lóðaframboði og hvernig sveitarfélögin þurfa orðið að fjárfesta í t.d. leikskóla- og grunnskólahúsnæði. Með samtali erum við að reyna að ná þessum málum upp á næsta stig,“ sagði Ólafur Þór. Nánar er rætt við þau Ólaf Þór og Áshildi í Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta á vf.is og sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Málþingið er í Hljómahöll á föstudaginn, 9. febrúar, og stendur frá kl. 12:00 til 15:00. Málþinginu verður gerð skil í Suðurnesjamagasíni í næstu viku.
Menntunarstig hefur aukist í Reykjanesbæ
845 0900
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@ vf.is // Blaðamenn: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, sími 421 0002, rannveig@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, sími 421 0002, solborg@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Sif Þorvaldsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum. Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM MANNLÍF Á SUÐURNESJUM VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM
Á Suðurnesjum hefur atvinnuþátttaka aukist, atvinnurekendum fjölgað, laun hafa hækkað og langskólagengnum hefur fjölgað. Þetta kemur fram í nýrri atvinnumálakönnun sem gerð var meðal íbúa á Suðurnesjum á tímabilinu október til desember 2017. MMR, Markaðs- og miðlarannsóknir, sáu um framkvæmd könnunarinnar fyrir Reykjanesbæ og Vinnumarkaðsráð Suðurnesja. Árið 2013 var gerð sambærileg könnun, í febrúar og október 2014 en þá aðeins fyrir íbúa Reykjanesbæjar. Samanburður rannsóknarinnar nær því aðeins til Reykjanesbæjar. Menntunarstig hefur aukist í Reykjanesbæ á milli kannana en alls höfðu 24% svarenda lokið háskólanámi í október 2017 en það hlutfall var 21% í október 2013. Þeim sem lokið hafa verklegu framhaldsnámi hefur einnig fjölgað úr 15% í 22%. Hlutfall þeirra sem hafa lokið skyldunámi hefur hækkað úr 40% í október 2013 í 32% í október 2017. Samkvæmt könnuninni hafa laun einnig hækkað og þeir sem hafa
lægstu launin hefur fækkað, en miðað er við samanlagðar mánaðartekjur fyrir skatt. Töluverð breyting hefur orðið á atvinnugreinum þegar spurt er um aðalstarf íbúa Reykjanesbæjar en 17% störfuðu í ferðaþjónustu, samgöngum og við flutninga í febrúar 2013 en fjöldi þeirra sem vinna við þessar greinar núna er 26%. Keflavíkurflugvöllur er jafnframt með hæsta hlutfall vinnandi fólks eða 75%, þeir sem starfa við verslun og sölu núna eru 7% og hafa þeir aldrei verið færri. Atvinnurekendur eru 13% í Reykjanesbæ en í október 2017 voru þeir
7%, launþegum hefur þá fjölgað á tímabilinu febrúar til 2013 til október 2017 úr 56% í 67% og þá hefur atvinnuleitendum fækkað úr 7% í 2%. FÍ Reykjanesbæ vinna flestir 100% stöðuhlutfalli eða 83% í Reykjanesbæ. Þar eru karlar 94% á móti 67% kvenna. Hringt var í íbúa á aldrinum 18 til 67 ára og var svarhlutfall 63% eða 1.030 manns af 1.632 manna úrtaki. Í Reykjanesbæ var svarhlutfall jafnt eftir kynjum og fór gagnaöflun fram á tímabilinu 31. október til 6. desember 2017.
Má bjóða þér bollu?
Allar gerðir af bollum bolludagshelgina og á bolludaginn! Vatnsdeigsbollur, gerbollur, Berlínarbollur og Vegan-bollur. Minnum fyrirtæki á að panta tímanlega fyrir bolludaginn.
HÖNNUN: VÍKURFRÉTTIR
Mikið úrval af kökum og brauðum alla daga vikunnar. Súpa og brauð í hádeginu alla virka daga.
Kaffihúsið er opið alla daga vikunnar
Mánudaga til föstudaga kl. 7:00–17:30 Laugardaga og sunnudaga kl. 7:00–17:00 Sigurjónsbakarí // Hólmgarður 2 // 230 Reykjanesbæ // Sími 421-5255
4
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
STARFSMENN SAMEINAÐS GARÐS OG SANDGERÐIS HALDA „ÞJÓÐFUND“ Við sameiningu sveitarfélaganna Garðs og Sandgerðis verður til nýr rúmlega 200 manna vinnustaður. Undirbúningsstjórn nýs sveitarfélags hefur sett starfsmannamál í forgang og fengið mannauðsráðgjafa til aðstoðar. Hlutverk mannauðsráðgjafanna er að stuðla að farsælli sameiningu vinnustaðanna og aðstoða við að innleiða vinnumenningu nýs sveitarfélags. Meðal annars með því að sinna
fræðslu til til starfsmanna og stjórnenda og undirbúa starfsfólk beggja sveitarfélaga fyrir þær breytingar sem fylgja sameiningunni. Eitt fyrsta verkefnið verður „Þjóðfundur“ þar sem allt starfsfólk hefur aðkomu að mótun framtíðarstefnu vinnustaðarins í sameinuðu sveitarfélagi. Markmiðið er að ná fram væntingum starfsfólks til nýs vinnustaðar, móta gildi hans og hefja mótun mannauðsstefnu.
Orlofshús VSFK - Páskar 2018 Ný orlofssíða VSFK orlof.is/vsfk er komin í loftið.
Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út um páskana: 3 hús í Svignaskarði 2 hús í Húsafelli 2 hús í Ölfusborgum 2 hús í Hraunborgum 1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri Útleigutímabil er frá miðvikudeginum 28. mars til og með miðvikudeginum 4. apríl 2018. Félagsmenn fara inn á www.orlof.is/vsfk og skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum, fylla skal út páskaumsókn þar með allt að 3 valmöguleikum. Einnig er hægt að fara inn á vsfk.is – Orlofshús (grænn takki) Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 fimmtudaginn 22. febrúar 2018. Úthlutað verður 26. febrúar samkvæmt punktakerfi. Orlofsstjórn VSFK
KIWANISKLÚBBURINN KEILIR GEFUR ÆVAR BANGSA Það er hefð fyrir því að Kiwanisklúbburinn Keilir gefi bangsa til Brunavarna Suðurnesja en bangsarnir eru ætlaðir til huggunar fyrir þau börn sem þurfa á sjúkraflutningum að halda. Bangsinn hefur fengið nafnið Ævar og er hann til minningar um Ævar Guðmundsson fyrrverandi Keilismann
sem lést árið 2008. Fjölskylda Ævars styrkti verkefnið Kiwanisklukkan og hefur verið afhentur styrkur í nafni Ævars síðan þá. Það var Ingólfur Ingibergsson forseti Keilis ásamt Guðrúnu Eyjólfsdóttur ekkju Ævars heitins sem afhentu bangsana í þetta skiptið og tók Ármann Árnason varðstjóri við gjöfinni fyrir hönd Brunavarna Suðurnesja.
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis
Störf í boði hjá Reykjanesbæ Njarðvíkurskóli – Kennarar í hlutastörf Skrifstofa Umhverfissviðs – Fulltrúi Tónlistarskóli – Skólaritari, 50% staða Byggðasafn – Safnstjóri Vinnuskóli – Flokkstjórar sumarið 2018 Vinnuskóli – Yfirflokksstjóri sumarið 2018 Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf og á facebook síðunni Reykjanesbær – laus störf.
Viðburðir í Reykjanesbæ Duus Safnahús Verið velkomin á opnun nýrra sýninga föstudaginn 9. febrúar kl. 18:00. Hjartastaður - Þingvallamyndir úr einkasafni Sverris Kristinssonar í listasal og 50 ára afmælissýning Kvennakórs Suðurnesja í Stofu. Dagur tónlistarskólanna 10. febrúar Hátíðardagskrá verður í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar kl. 10:45 - 13:15. Kaffihús Strengjadeildar opið. Sjá nánar á vefnum tonlistarskoli.reykjanesbaer.is Gjaldskrá félagsþjónustu Ný gjaldskrá félagsþjónustu hefur tekið gildi. Sjá nánar á vef Reykjanesbæjar: Stjórnsýsla: Gjaldskrár 2018.
Gengið inn um aðalinngang HSS í Reykjanesbæ allan sólarhringinn Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) hefur gert samning við Öryggismiðstöðina um að öryggisvörður verði á staðnum öll kvöld og um nætur. Hlutverk hans verður að vakta húsnæðið, gæta öryggis starfsfólks og skjólstæðinga og að hleypa skjólstæðingum HSS inn og afgreiða. Leita skal til vaktþjónustu lækna ef ekki er um að ræða alvarleg veikindi eða slys utan dagvinnutíma. Vakt-
þjónusta lækna er á virkum dögum frá kl. 16 til 20, um helgar og helgidaga frá kl. 10 til 13 og aftur kl. 17 til 19. Vegna slysa- og bráðaveikinda skal líkt og áður hringja í síma 1770 um kvöld, nætur og helgar og helgidaga til þess að meta þjónustuþörf. Í neyðartilfellum á alltaf að hafa samband við 112. Þeir sem þurfa á slysa- og bráðaþjónustu að halda, fæðingarþjónustu sem og aðstandendur mikið veikra
sjúklinga á legudeild um kvöld, nætur og helgar og helgidaga, eiga að ganga inn um aðalinngang HSS en ekki um sjúkrabílainngang. Við innganginn er bjalla sem fólk ýtir á til að gera öryggisverði viðvart sem hleypir svo viðkomandi inn í biðsal HSS. Er það von stjórnenda og starfsfólks HSS að þessar breytingar muni mælast vel fyrir, enda er tilgangurinn sá að bæta bæði þjónustu og öryggi á stofnuninni.
Dagur tónlistarskólanna haldinn hátíðlegur Tónlistarskólar landsins eru um níutíu talsins og standa fyrir gríðarlega fjölbreyttu og öflugu skólastarfi. Einn dagur á ári „Dagur tónlistarskólanna“, er tileinkaður þeim og efna skólarnir þá til ýmis konar viðburða til að brjóta upp skólastarfið og vekja athygli á starfsemi sinni. Markmiðið er að auka sýnileika og styrkja tengsl tónlistarskóla við nærsamfélagið. Dagur tónlistarskólanna er haldinn annan laugardag í febrúar ár hvert, sem að þessu sinni ber upp á þann 10. febrúar. Tónlistarskóli Reykjanesbæjar heldur Dag tónlistarskólanna hátíðlegan að venju með fjölbreyttri dagskrá í Tónlistarskólanum, Hjallavegi 2 sem hefst með opnun Kaffihúss Strengjadeildar kl.10.45 en ágóðinn rennur í ferðasjóð
Strengjadeildar. Nemendur Forskóla 2 fá hljóðfærakynningu og prufutíma á hljóðfæri frá kl.11-12 og á sama tíma verða „Ör-tónleikar“ á þremur tónleikastöðvum í skólanum. Tónfræðikeppnin Kontrapunktur hefst svo kl.12 í tónleikasalnum Bergi. Dagskráin í heild er á vefsíðu skólans tonlistarskoli.reykjanesbaer.is
og á Facebooksíðu hans. Einnig á vef Reykjanesbæjar og Facebooksíðu bæjarins. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru eindregið hvattir til að kynna sér dagskrá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á þessum hátíðisdegi íslenskra tónlistarskóla, kíkja við og njóta þess sem í boði er.
markhönnun ehf
Gerðu vel við þig með frábærum helgartilboðum! KARTÖFLUR 1,5 KG. KR PK ÁÐUR: 359 KR/PK
ÓDÝRT Í
-30%
298
GRÍSAKÓTILETTUR FERSKAR KR KG ÁÐUR: 1.598 KR/KG
1.119
ANANAS GOLD DEL MONTE KR KG ÁÐUR: 378 KR/KG
189
-50% -40% 1.199 GRÍSAHNAKKI KR KG ÁÐUR: 1.998 KR/KG
-30%
-30%
-38%
LAMBAHRYGGUR FYLLTUR KR KG ÁÐUR: 3.669 KR/KG
2.275
LAMBABÓGSSTEIK Í SVEPPAMARINERINGU KR KG ÁÐUR: 3.498 KR/KG
2.449
NAUTAHAMBORGARAR M/BRAUÐI. 4 X 90 GR. KR PK ÁÐUR: 1.164 KR/PK
780
GRANDIOSA PIZZA/PEPPERONI NACHO /4 OSTA HAKK & LAUKUR KJÖTBOLLUR KR STK ÁÐUR: 699 KR/STK
419
Gómsætt og girnilegt!
-40%
GRÍSABÓGUR HRINGSKORINN KR KG ÁÐUR: 998 KR/KG
-40%
599
Tilboðin gilda 8. - 11. febrúar 2018 www.netto.is Tilboðin gilda meðan birgðir endast • Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl • Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana. Búðakór • Grandi • Mjódd • Salavegur • Hafnarfjörður • Hrísalundur • Glerártorg • Húsavík • Höfn • Iðavellir • Grindavik • Krossmói • Borgarnes • Ísafjörður • Egilsstaðir • Selfoss
www.netto.is
6
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
Hollvinasamtök safna undirskriftum gegn niðurrifi Sundhallar Keflavíkur Hollvinasamtök Sundhallar Keflavíkur hafa verið stofnuð og hafin er söfnun undirskrifta undir áskorun til bæjaryfirvalda í Reykjanesbæ um að fresta afgreiðslu breytingar á deiliskipulagi á svæðinu sem heimilar niðurrif Sundhallar Keflavíkur. Hollvinir Sundhallarinnar vísa til bréfs Minjastofnunar Íslands til skipulagsyfirvalda, þar óskað hefur verið eftir frestun svo tækifæri gefist til að finna húsinu verðugt hlutverk og varðveita. Hollvinir Sundhallar Keflavíkur héldu fjölmennan íbúafund í bíósal Duus Safnahúsa sl. fimmtudag. Þar voru flutt erindi um Sundhöll Keflavíkur og um verndun gamalla húsa. Flutt var erindi um Guðjón Samúelsson, húsa-
meistara ríkisins, sem m.a. teiknaði Sundhöll Keflavíkur og tvær aðrar byggingar í Keflavík, fyrstu byggingu sjúkrahússins og Myllubakkaskóla. Pétur Ármannsson arkitekt flutti erindi á fundinum og sagði húsið hefði ótvírætt byggingar- og menningarsögulegt gildi en allir sem töluðu á fundinum í gær töluðu fyrir því að Sundhöll Keflavíkur fái að standa og hún fái verðugt hlutverk á ný. Ragnheiður Elín Árnadóttir, fv. ráðherra, telur mikilvægt að bæjaryfirvöld staldri við og endurskoði áform sem heimila niðurrif byggingarinnar. Nú verði ráðist í söfnun undirskrifta og þær afhentar áður en viðkomandi yfirvöld þurfa að taka sína ákvörðun.
Ragnheiður Elín Árnadóttir hefur farið fyrir Sundhallar-vinum. Hér er hún með undirskriftalista sem eru farnir að ganga í Reykjanesbæ þar sem hvatt er til þess að ekki verði veitt heimild til niðurrifs á Sundhöll Keflavíkur. VF-myndir: Páll Ketilsson og Hilmar Bragi
Frá íbúafundi sem haldinn var í Bíósal Duus Safnahúsa í síðustu viku þar sem áherslan var „Björgum Sundhöll Keflavíkur“. Góð mæting var á fundinn.
Nýtt sveitarfélag má ekki heita Sandgerði eða Garður
Viðtal fyrir snjalla lesendur Í meðfylgjandi QR-kóða má nálgast sjónvarpsviðtal sem Víkurfréttir tóku við Ragnheiði Elínu Árnadóttur eftir íbúafundinn um Sundhöll Keflavíkur.
Næst lægstu frístundagjöld landsins í Reykjanesbæ Reykjanesbær býður upp á næst lægstu gjöldin á landinu fyrir barn í skóladagvistun með hressingu og hádegismat í skóla, en ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám frá árinu 2017 til 2018 fyrir þessa þrjá þætti. Fyrir eitt barn í skóla í Reykjanesbæ kostar mánuðurinn 24.565 kr og er það 205 kr. hærra en Vestmannaeyjar bjóða, en þar eru gjöldin lægst á landinu. Reykjanesbær hefur ekki hækkað gjöldin sín á milli ára.
Sandgerðishöfn verður eina fiskiskipahöfn sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis. Í kjölfar ákvörðunar um sameiningu Sveitarfélagsins Garðs og Sandgerðisbæjar liggur fyrir að velja nafn hins nýja sveitarfélags. Skipuð hefur verið nafnanefnd sem kallar eftir tillögum að nafni fyrir nýja sveitarfélagið. Nefndin mun velja nöfn úr tillögunum og senda Örnefnanefnd til umsagnar. Öllum er frjálst að senda inn tillögur, segir í tilkynningu frá nafnanefnd sveitarfélaganna. Um miðjan mars mun fara fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa Sveitarfélagsins Garðs og Sandgerðisbæjar um nafn hins sameinaða sveitar-
AÐALFUNDIR DEILDA UMFN 2018 VERÐA HALDNIR SEM HÉR SEGIR:
Miðvikudagur 14. febrúar Knattspyrnudeild UMFN
Mánudagur 26. febrúar Sunddeild UMFN
Þriðjudagur 27. febrúar Þríþrautardeild UMFN
Miðvikudagur 28. febrúar Júdódeild UMFN
Fimmtudagur 1. mars Lyftingardeild UMFN
Mánudagur 5. mars Körfuknattleiksdeild UMFN
Allir fundirnir hefjast kl. 19:30 og verða í íþróttahúsinu í Njarðvík, sal félagsins á annarri hæð, nema fundur knattspyrnudeildarinnar sem hefst kl. 20:00 og verður í íþróttavallarhúsinu. Allir velkomnir
félags. Valið mun standa á milli 3-5 tillagna sem hlotið hafa jákvæða umsögn Örnefnanefndar. Atkvæðagreiðslan verður leiðbeinandi en ekki bindandi. Nafn hins sameinaða sveitarfélags verður staðfest af nýrri sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags sem kjörin verður 26. maí næstkomandi. Samkvæmt lögum skal nafnið samrýmast íslenskri málfræði og málvenju og tengjast viðkomandi svæði sérstaklega. Æskilegt er að nafn sveitarfélagsins beri með sér að um stjórnsýslueininguna sveitarfélag sé að ræða, þ.e. að heiti sveitarfélagsins
endi til dæmis á, -bær, – kaupstaður, -byggð, -þing eða að Sveitarfélagið sé skeytt framan við nafnið. Tekið er fram að ekki er verið að horfa til núverandi stjórnsýsluheita sveitarfélaganna eða tilvísunar í þau. Nöfnin Sandgerði og Garður verða áfram notuð um byggðakjarnana og koma ekki til álita sem nöfn á hið nýja sveitarfélag. Hægt er að skila tillögum á bæjarskrifstofur sveitarfélaganna, eða með því að senda tölvupóst á netfangið nyttnafn@sandgerdi.is eða nyttnafn@svgardur.is Til að gæta hlutleysis hefur nefndin ákveðið að fara fram á að tillögur njóti nafnleyndar þar til nafn hefur verið valið. Það skal gert á þann hátt að tillaga að nafni, ásamt nafni og heimilisfangi höfundar, skal sett í umslag og því lokað. Utan á umslagið skal á ný skrifa tillöguna að nafni sveitarfélagsins. Umslaginu skal komið á bæjarskrifstofu og það merkt „Nafn sameinaðs sveitarfélags“. Starfsmaður nefndarinnar mun afmá nöfn af þeim tillögum sem berast rafrænt, til að tryggja nafnleynd höfundar. Skilafrestur er til kl. 12:00 þann 12. febrúar 2018.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Skátafélagsins Heiðabúa fer fram mánudaginn 26. febrúar kl. 19:30 í skátaheimilinu á Hringbraut 101. Kosið verður um stjórn félagsins, lagabreytingar afgreiddar, farið yfir árskýrslu og ársreikninga. Lausar eru stöður félagsforingja, ritara, meðstjórnanda og varamanna. Meðstjórnendur og varamenn gefa áfram kost á sér en allir geta boðið sig fram í þær stöður. Einnig er óskað eftir tillögum um breytingar á lögum félagsins ef einhverjar. Áhugasamir hafi samband við Árna Frey í síma 865-5776 eða í tölvupósti á arnifreyr@ymail.com Umsóknarfrestur um stöðu í stjórn og tillögur að lagabreytingum er til föstudagsins 12. febrúar. Við bjóðum öllum virkum skátum og forráðamönnum þeirra, sem og öllum áhugasömum um skátahreyfinguna velkomna á fundinn. Með skátakveðju! Stjórn Heiðabúa.
af raftækjum til
félagsmanna Viltu gerast félagsmaður?
R
K -100.000
• Hægt er að sækja um kort á heimasíðu Samkaupa: www.samkaup.is/afslattarkort • Skráningargjald: 1.000 kr. • Kortið veitir 2% afslátt af öllum þínum innkaupum. • Þú færð kortið sent til þín innan nokkurra daga, en með bráðabirgðakortinu getur þú nýtt þér þessi frábæru tilboð*.
PANASONIC 65” 4K SMART LED SJÓNVARP Verð áður: 249.995 kr.
HANGIFRAMPARTUR ÚRBEINAÐUR KR/KG KR.
1.679149.995
OBH NORDICA BLANDARI POWER ROCKET
-48%
KHAPP 1000W BLANDARI STÁL Verð áður: 12.995 kr.
7.995 KR. -38%
LG 55” ULTRA HD SMART SJÓNVARP
-22%
Verð áður: 22.995 kr.
11.995 KR.
8. febrúar. - 11. febrúar
Verð áður: 129.995 kr.
JBL BLUETOOTH HÁTALARI SVARTUR
Verð áður: 13.895 kr.
10.895
99.995
KR
-23%
KR.
-22% KRUPS NESPRESSO PIXIE
-50%
RAUÐ EÐA TITANIUM
MELISSA SOUS VIDE TÆKI
MELISSA VACUUM PÖKKUNARTÆKI
Verð áður: 22.995 kr.
Verð áður: 12.995 kr.
Verð áður: 3.995 kr.
17.995 KR
100 ÞÚSUND KRÓNUR FYRIR TVO HEPPNA! *Tilboð gilda ekki í Nettó á Salavegi, Búðakór, Granda og Iðavöllum.
-31%
8.995 KR
1.995 KR
Í TILEFNI FÉLAGSMANNADAGA HÖFUM VIÐ NÚ SETT Í GANG EINFALDAN LEIK. VIÐ HVETJUM ALLA TIL AÐ TAKA ÞÁTT! Tveir heppnir þátttakendur fá 100 þúsund króna inneignakort sem gildir í öllum verslunum Samkaupa. Taktu þátt, hér og nú, og skráðu þig á www.samkaup.is Dregið verður úr öllum þátttakendum 28. febrúar 2018. Kortið er hægt að nota í öllum verslunum Samkaupa.
markhönnun ehf
Afsláttarsprengja
10 stk. BOLLUR
1 lítri
898
195
MS Rjómi 1 lítri
ES Þeytirjómi 250 g
498
kr. 250 g
kr. 1 l
SAMA VERd
um land allt
kr. 10 stk.
Bónus Vatnsdeigsbollur 10 x 25 g
Ljúffengar rjómabollur
498 279 kr. 280 g
kr. 2 stk.
Bónus Glassúr 280 g, 3 tegundir
Bónus Rjómabollur 2 stk. vatnsdeigsrjómabollur
FULLELDAÐ
Aðeins að hita
1kg
179 kr. 450 g
998 kr. 1 kg
ES Jarðarberjasulta 450 g Verð gildir til og með 11. febrúar eða meðan birgðir endast
Stjörnugrís Steiktar Hakkbollur Fulleldaðar, 1 kg
BITAR ÚR
FRAMHRYGG
998 kr. kg
1.698 kr. kg
598
SS Lambasaltkjöt Blandað
SS Lambasaltkjöt Valið
Búrfells Lambasaltkjöt Blandað
kr. kg
Ómissandi í
45%
BAUNASÚPUNA
minna salt sama bragð
279 kr. kg
1.098 kr. kg
398
Kjarnafæði Lambasíður Saltaðar
Íslandslamb Saltkjöt Saltskert, blandað
Bónus Beikonkurl Íslenskt, 500 g
129
398
Heima Gular baunir 500 g
Katla Baunasúpa Tilbúinn grunnur, 1 lítri
kr. 500 g
kr. 1 l
kr. 500 g
295 kr. kg Rófur
Opnunartími í Bónus: Mánudaga-Fimmtudaga; 11:00-18:30 • Föstudaga; 10:00-19:30 • Laugardaga; 10:00-18:00 • Sunnudaga; 12:00-18:00
10
MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
MERK TÍMAMÓT HJÁ MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR Á SUÐURNESJUM
„Veruleikakassinn“, listaverk sem var unnið af þáttakendum Samvinnu starfsendurhæfingar undir leiðsögn Tobbu listakonu, var afhjúpað á afmælinu.
þátttakenda á einstaklingsmiðaðan hátt. Samvinna býður upp á fjölbreytt úrræði sem aðstoðar þátttakendur við að bæta heilsu sína og líðan, halda virkni og rútínu, hitta aðra einstaklinga sem eru að vinna með eigin hindranir ásamt því að kynnast vinnumarkaðinum á svæðinu og fá tækifæri til að láta reyna á vinnugetu sína. Tveir einstaklingar sögðu frá reynslu sinni í afmælisfagnaðinum og lofuðu mjög hjálpina sem þau
fengu í sínum erfiðleikum. Þau afhjúpuðu listaverkið „Veruleikakassann“ sem var unnið af þátttakendum Samvinnu starfsendurhæfingar. Þá var annað listaverk afhjúpað en það var „Skrefin“, gert af listamanninum Eyþóri Eyjólfssyni eða Ethorio en verkið var unnið út frá upplifun nemenda MSS. Sönghópurinn Vox Felix söng og Eyþór Ingi Gunnlaugsson skemmti gestum og starfsmönnum MSS.
Kristín María Birgisdóttir, bæjarfulltrúi í Grindavík og formaður stjórnar MSS var veislustjóri.
Listaverkið „Skrefin“ var afhjúpað. Listamaðurinn Ethorio er hér fyrir framan verkið. Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum fagnaði tuttugu ára afmæli í húsakynnum MSS í Krossmóa sl. fimmtudag. Einnig var tíu ára afmæli Samvinnu starfsendurhæfingar fagnað. Fjöldi fólks mætti í afmælisfagnaðinn en tímamótanna verður einnig minnst á afmælisárinu með skemmtilegum viðburðum.
Guðjónía Sæmundsdóttir, forstöðumaður MSS með Skúla Thoroddsen, fyrrverandi forstöðumanni.
Núverandi og fyrrverandi forstöðumenn MSS héldu ræður og minntust upphafsára stofnunarinnar en reksturinn hófst í bakherbergi í húsnæði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar var fyrsti forstöðumaðurinn og hann sagði í ávarpi sínu að eitt það helsta sem Ólafur Arnbjörnsson, skólameistari Fjölbrautaskólans hefði sagt við sig að nú þyrfti hann að kynna sér internetið. Allir viti sögu þess
núna. Guðjónína Sæmundsdóttir, núverandi forstöðumaður sagði að MSS hafi vaxið mikið og starfsemin væri orðið mjög fjölbreytt. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ sagði að verkefnið Samvinna endurhæfing hafi gengið mjög vel en hann fór yfir það í máli sínu. Hugmyndafræði Samvinnu gengur út á að vinna að heilstæðri úrlausn með hindranir
Starfsmenn MSS voru í góðum gír á tímamótunum.
Sumarstörf við öryggisvörslu
Tækniþjónusta Icelandair á Keflavíkurflugvelli leitar að þjónustulunduðum, snyrtilegum og reyklausum einstaklingum. Óskað er eftir starfsfólki í vaktavinnu Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á 12 tíma næturvöktum, 5-5-4 vaktafyrirkomulag. STARFSSVIÐ: | Í starfinu felst meðal annars vopna- og öryggisleit eftirlit og önnur verkefni. HÆFNISKRÖFUR: | Aldurstakmark 20 ár | Hafa gott vald á íslenskri og enskri tungu. | Almenn tölvukunnátta Umsóknir óskast fylltar út á www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 18. febrúar nk. Nánari upplýsinar veita: Sveina Berglind Jónsdóttir | netfang: sveinaj@icelandair.is Sævar Þorkell Jensson | netfang: saevars@its.is
Sparaðu eins og meistari
@islandsbanki
440 4000
Meistaramánuður Íslandsbanka
Til þess að verða meistari í þínu lífi þarftu að setja þér raunhæf markmið. Skráðu þig í reglubundinn sparnað hjá Íslandsbanka strax í dag og taktu fjármálin með trompi. Eins og meistari!
islandsbanki.is
islandsbanki.is/meistari
12
MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
Kvennakór Suðurnesja fagnar 50 ára afmæli
Þann 22. febrúar 2018 verða 50 ár liðin frá því að Kvennakór Suðurnesja var stofnaður og er hann elsti starfandi kvennakór landsins. Kórinn hefur átt sinn þátt í blómlegu menningarlífi á Suðurnesjum og hefur stuðlað að þátttöku kvenna í tónlistarlífi á svæðinu, en mikill fjöldi söngkvenna hefur sungið með kórnum þessi 50 ár. Kórinn ætlar að halda veglega upp á stórafmælið með afmælistónleikum í Stapa, Hljómahöll á sjálfan afmælisdaginn, auk þess sem haldin verður sýning í tengslum við afmælið í samstarfi við Byggðasafn Reykjanesbæjar í Stofunni í Duus Safnahúsum. Einnig munu Víkurfréttir gefa út sérblað í tilefni afmælisins sem gefið verður út miðvikudaginn 14. febrúar og dreift í öll hús á Suðurnesjum, þar sem farið verður yfir sögu og starfsemi kórsins í máli og myndum. Á tónleikunum í Stapa verður flutt tónlist eftir Suðurnesjatónskáld og textahöfunda, má þar nefna Magnús Þór Sigmundsson, Of Monsters and Men, Gunnar Þórðarson, Valdimar, Rúnar Júlíusson, Hjálma, Þorstein Eggertsson, Magnús Kjartansson og fleiri. Kórinn fær til liðs við sig frábært tónlistarfólk af Suðurnesjum, en þau Valdimar Guðmundsson úr hljómsveitinni Valdimar og Fríða Dís úr
Kvennakór Suðurnesja fagnar stórum áfanga á næstunni. Klassart koma fram á tónleikunum og um hljóðfæraleik sjá Geirþrúður Fanney Bogadóttir á píanó, Þorvaldur Halldórsson á trommur, Jón Árni Benediktsson á bassa, Ásgeir Aðalsteinsson á gítar og Valdimar Guðmundsson á básúnu. Stjórnandi kórsins er Dagný Þórunn Jónsdóttir. Sýningin í Duus mun spanna 50
ára sögu kórsins í máli, myndum og hljóðdæmum. Sýningin verður opnuð föstudaginn 9. febrúar og mun kórinn syngja við opnunina kl. 18. Einnig heldur kórinn tónleika í Bíósalnum í Duus við lok sýningarinnar sunnudaginn 11. mars, en þá helgi er safnahelgi á Suðurnesjum. Safnið er opið alla daga frá kl. 12 - 17.
Kórkonur eru stoltar af því að konum hér á Suðurnesjum hafi tekist að halda starfseminni svo blómlegri allan þennan tíma. Þar eiga stofnendur kórsins mikinn þátt því vel var staðið að uppbyggingu fyrstu árin þrátt fyrir erfiðar aðstæður fyrir konur á þeim tíma að stunda og reka félagsstarfssemi. Fjölmargar kon-
ur af Suðurnesjum hafa átt þátt í að syngja með kórnum og halda honum gangandi. Þessari starfssemi sem er hluti af okkar menningarlífi og sögu kvenna á Suðurnesjum verður gerð skil á sýningunni. Margir ættu þar að kannast við ömmu, mömmu, systur eða vinkonu í sögu kórsins.
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Tvö stöðugildi til Lögreglunnar á Suðurnesjum Sigríður Andersen, dómsmálaráðherra tilkynnti á blaðamannafundi í dómsmálaráðuneytinu að Lögreglan á Suðurnesjum fengi tvö stöðugildi til viðbótar til embættisins vegna rannsókna kynferðisbrotamála. Með því að fjölga stöðugildunum ættu lögreglumenn að geta lagt enn meiri áherslu á rannsókn kynferðisbrota, hún segist jafnframt hafa þær væntingar að þetta muni skipta sköpum.
Stal viftu úr bókasafni
Suðurnesjaþekking Reykjanes sækir á í ferðamennsku. Ferðaþjónustufyrirtæki og starfsfólk í greininni gera sér grein fyrir að þekkingin og hæfnin eru hluti af slíkri sókn. Kynntu þér fjölbreytt framboð á náms- og fræðslumöguleikum sem kynnt er á vef Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.
Karlmaður sem lagði leið sína á Bókasafn Reykjanesbæjar um helgina stal þaðan viftu, lögreglan á Suðurnesjum hafði skömmu síðar upp á honum á veitingahúsi í umdæminu. Í fórum hans fannst viftan og einnig fartölva sem grunur lék á að hann hefði fengið með ólögmætum hætti. Skýringar mannsins á því hvernig hann hefði eignast þessa muni voru mjög óskýrar og lögregla komst fljótlega að því að hvoru tveggja væri stolið. Viftunni og tölvunni var komið í réttar hendur. Þá barst lögreglunni tilkynning um þjófnað á humri úr frystigámi í umdæminu, hengilás hafði verið klipptur sundur til að komast inn í gáminn. Ekki er ljóst hversu miklu magni var stolið en lögreglan rannsakar málið.
FRÁ RITSTJÓRN
Leiðrétt
Þekking skapar hæfni. Hæfni skapar gæði.
www.hæfni.is
Í síðasta tölublaði Víkurfrétta sagði Hallur J. Gunnarsson hjá Minja- og sögufélagi Grindavíkur að það hefði sprungið hitavatnsrör í Flaggstangarhúsinu þar sem að ýmislegt hefði soðnað og skemmst. Hallur átti við Gesthús en ekki Flaggstangarhúsið. Þá var Kvennó byggt árið 1930. Þessum leiðréttingum er hér með komið á framfæri.
HAGSTÆTT FYRIR HEIMILIÐ
Kjörfugl bringur
1.599 kr. kg.
D Léttmjólk 1L
149 kr. stk.
Myllu heimilisbrauð
349 kr. stk.
ENGIHJALLI – VESTURBERG – ARNARBAKKI – GLÆSIBÆR – STAÐARBERG – HAFNARGATA – KAUPANGUR
14
MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
Benedikt Máni Möller sýnir tréskurðarverk sín á Bókasafni Reykjanesbæjar:
VIÐTAL
Þrettán ára listamaður
Sýning á tréskurðarverkum hins þrettán ára gamla Benedikts Mána stendur nú yfir í Bókasafni Reykjanesbæjar, en Benedikt hefur einungis fengist við tréskurð í eitt ár og hefur náð ótrúlegri færni stuttum tíma. Benedikt Máni er einhverfur en hann segir það að skera út eitt það skemmtilegasta sem hann geri og er það hans helsta áhugamál um þessar mundir. Víkurfréttir hittu Benedikt á Bókasafni Reykjanesbæjar og spurðu hann aðeins út í sýninguna og tréskurðinn. Gleymir stund og stað þegar hann tálgar
Benedikt tálgar meðal annars hnífa, dýr og andlit. Hann sýnir muni sem hann hefur tálgað frá byrjun en það
DAGUR TÓNLISTARSKÓLANNA Á LAUGARDAGINN Dagur tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 10. febrúar n.k. Af því tilefni verður hátíðardagskrá í Tónlistarskólanum frá kl. 10.45 til 13.15. 10.45
Kaffihús Strengjadeildar opnar Rokkhljómsveit spilar 11.00–12.00 Hljóðfærakynningar og prufutímar fyrir nemendur Forskóla 2 Ör-tónleikar til skiptis á þremur tónleikastöðvum í skólanum 12.00–12.50 Tónfræðikeppnin Kontrapunktur í Bergi. Öllum velkomið að fylgjast með 12.50 „Hljómsveitir kallast á“. Strengja-/Gítarsveit og yngri Lúðrasveit „tala saman“ Tónver skólans starfrækir netsjónvarp á Facebook-síðu hans meðan á dagskránni stendur Kaffihús Strengjadeildar verður opið frá 10.45–13.15 Ágóðinn rennur í ferðasjóð Strengjadeildar Sjá nánar á vefsíðunni tonlistarskoli.reykjanesbaer.is og á Facebook Allir hjartanlega velkomnir Skólastjóri
er augljóst að það er listamaður hér á ferð og er handverk hans afar fallegt og vandað. „Pabbi gaf mér fyrsta hnífinn minn til að tálga með og þá var ekki aftur snúið. Þetta er það
Rannveig Jónína Guðmundsdóttir rannveig@vf.is
skemmtilegasta sem ég geri og eftir skóla fer ég heim þar sem að ég er með sér aðstöðu og byrja að tálga. Ég á það meira að segja til að gleyma að borða, mér finnst þetta svo skemmtilegt.“
Áhuginn kviknaði eftir að hann horfði á jólamynd
Benedikt fékk áhuga á tálgun eftir að hann horfði á kvikmynd sem heitir „Christmas Story“ en í henni er strákur sem er að tálga, þá langaði Benedikt í hníf eins og hann var með í myndinni og þar kviknaði áhuginn. „Ég er orðinn töluvert betri að tálga núna heldur en þegar ég byrjaði, ég er bestur í því að skera út andlit með skegg og er ágætur að gera hnífa eða er bara nokkuð góður í því.“ Viðurinn sem Benedikt notar er náttúruviður sem hann finnur úti en hann segir að það sé besti viðurinn til að tálga. „Mér finnst best að nota við sem er þéttur í sér, Ösp er frábært að tálga en það er eins og ég sé að skræla kartöflu þegar ég tálga hana.“
Ekta verkfæri fyrir ekta listamann
Verkfærin eru mjög mikilvæg þegar kemur að tálgun og það skiptir miklu máli að fara vel með þau og nota þau rétt. „Ég elska að fara í Handverksbúðina, það er draumastaðurinn minn en þar fæ ég allt sem ég þarf að nota til að tálga. Núna er ég kominn með verkfærasett fyrir ekta listamann og ég fer með þau eins og gull, ég gerði það ekki hér áður en núna fer ég mjög vel með öll þau verkfæri sem ég á því þau eiga það til að ryðga.“ Þegar Benedikt er spurður hvers vegna hann er með sýningu á Bókasafni Reykjanesbæjar segir hann frá því að einn daginn hafi hann verið að leita að bókum um tálgun og þá hafi hann verið spurður hvort hann vildi ekki setja upp sýningu á safninu. Sýningin stendur yfir í fimm vikur eða fram í byrjun mars og hægt er að skoða fígúrur og karla sem Benedikt hefur tálgað á síðastliðnu ári en það er óhætt að segja að Benedikt eigi framtíðina fyrir sér og í honum búi sannur listamaður.
UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
15
STÖLDRUM VIÐ OG HUGUM AÐ SÖGUNNI OKKAR Björgum Höllinni. Undirskriftasöfnun hafin. „Ef við hyggjum ekki að fortíð okkar, getum við ekki átt mikla von fyrir framtíð okkar,“ sagði Jackie Kennedy Onassis á tröppum Grand Central lestarstöðvarinnar í New York árið 1975, þegar til stóð að rífa þá merku byggingu og byggja 59 hæða skrifstofubyggingu í staðinn. Hún bætti við: „Við höfum öll heyrt að þetta sé of seint, eða að þetta þurfi að gerast, að þetta sé óumflýjanlegt. En ég held að það sé ekki satt. Vegna þess að ég tel að þegar það er sterkur vilji, jafnvel á elleftu stundu, þá getur þú haft sigur og ég veit að það er það sem munum hafa“. Og sem betur fer hlustuðu borgaryfirvöld í New York á þau rök og þessi fallega og sögufræga bygging heldur upp á 105 ára afmæli sitt síðar í þessum mánuði. Afmælisbarnið, sem var 62 ára þegar tókst að bjarga því, hefur sjaldan litið betur út og aldrei hafa fleiri notað bygginguna en einmitt núna. Þetta eru vissulega tvö ólík hús, tímarnir eru aðrir en samt eiga nákvæmlega sömu rökin við um 68 ára gamla Sundhöllina okkar í dag. Það er sterkur vilji meðal bæjarbúa fyrir að þyrma húsinu, þetta er alls ekki of seint, þetta þarf ekki að gerast og því fer fjarri að þetta sé óumflýjanlegt. Við erum auk þess réttu megin við þessa ákvörðun - það hefur ekki verið heimilað að rífa Sundhöll Keflavíkur og breyting á deiliskipulagi sem heimilar að byggt sé á lóðinni hefur ekki verið staðfest. Þeir sem segja að þetta sé frágengið og löngu ákveðið hafa einfaldlega rangt fyrir sér. Hvers vegna var þá verið að auglýsa eftir athugasemdum við deiliskipulagsbreytinguna og halda íbúafund? Auðvitað vegna þess að rétt eins og segir í umsögn Minjastofnunar frá því í október 2017, þá er það „…í höndum sveitarfélagsins að ákvarða um framtíð þess“. Reykjanesbær fer með skipulagsvaldið og núverandi bæjarstjórn ber ábyrgð á þeirri ákvörðun um hvort rífa skuli húsið.
Eignarhald og skaðabætur?
Rætt hefur verið um meintar skaðabætur og fjárútlát sem myndu lenda á Reykjanesbæ ef deiliskipulaginu yrði hafnað. Það er einnig
Rætt hefur verið um meintar skaðabætur og fjárútlát sem myndu lenda á Reykjanesbæ ef deiliskipulaginu yrði hafnað. Það er einnig rangt. Það er ekki fyrr en deiliskipulagið yrði samþykkt sem möguleg skaðabótaskylda gæti myndast. Húsið var selt fyrir tæpu ári til núverandi eiganda, engin heimild til niðurrifs var til staðar þá (frekar en nú) samkvæmt gildandi deiliskipulagi né heimild til að byggja á lóðinni.
Gömlu búð og Fischershúsi. Verkefnið um Duusverndarsvæði í byggð þar sem bæjarbúum er hleypt að skipulagsvinnunni með beinum hætti er eftirtektarvert og algjörlega til fyrirmyndar. Öllum þessum húsum átti að farga á einhverjum tímapunkti, en var sem betur fer afstýrt. Við getum þakkað mönnum eins og Bigga Guðna heitnum fyrir þrautsegju þeirra og baráttu - ég leyfi mér að fullyrða að það sé erfitt að finna þann íbúa í dag sem myndi vilja Duus húsin burt. Sundlaugin okkar var byggð af Ungmannafélaginu og íbúunum sjálfum af miklum dugnaði, þrautseigju og samstöðu. Hún var vígð árið 1939, óskabarn kauptúnsins og eitt helsta stolt þess. Sundhallarbyggingin var vígð 1950, var byggð eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar og var fjármögnuð af almannafé, með samskotum og alls kyns fjáröflun meðal bæjarbúa. Þessi saga er dýrmæt og ber að halda á lofti. Það verður best gert með því að vernda húsið og finna því viðeigandi hlutverk. Nú er tíminn til að staldra við og leita lausnar sem allir geta orðið sáttir um. Lærum af sögunni og finnum leið til þess að blanda því nýja með hinu gamla, eins og alls staðar er að gerast. Ég nefni uppbygginguna á Grandanum sem nærtækt dæmi. Fyrir hönd nýstofnaðra Hollvinasamtaka Sundhallar Keflavíkur skora ég á bæjarstjórn Reykjanesbæjar að fara að tilmælum Minjastofnunar frá 31. janúar og „fresta því að samþykkja breytingu á deiliskipulagi svo tími vinnist til að kanna hvort unnt sé að finna húsinu verðugt hlutverk og varðveita það“. Undirskriftasöfnun er hafin og má skrifa undir á netinu (sjá slóð á Facebook- síðu hópsins Björgum Sundhöll Keflavíkur). Einnig munu fulltrúar Hollvinasamtakanna vera á ferðinni næstu daga með undirskriftalistana. Við hvetjum bæjarbúa til að taka afstöðu með sögu okkar og Sundhöllinni og skrifa undir áskorunina.
Mikið úrval af gómsætum
rangt. Það er ekki fyrr en deiliskipulagið yrði samþykkt sem möguleg skaðabótaskylda gæti myndast. Húsið var selt fyrir tæpu ári til núverandi eiganda, engin heimild til niðurrifs var til staðar þá (frekar en nú) samkvæmt gildandi deiliskipulagi né heimild til að byggja á lóðinni. Þetta vissu núverandi eigendur þegar þeir keypu húsið á innan við 40 milljónir króna og þess vegna sækja þeir um breytingu á deiliskipulagi til Reykjanesbæjar. Og það er sú tillaga sem ekki er búið að staðfesta. Á fjölmennum fundi sem nýstofnuð Hollvinasamtök Sundhallarinnar héldu sl. fimmtudag, og nærri 4000 manns hafa horft á á vefnum, fór Pétur Ármannsson, helsti sérfræðingur Íslands í verkum Guðjóns Samúelssonar yfir sögu þessa mikla meistara og mikilvægi Sundhallarinnar okkar í þeirri sögu. Margt fróðlegt kom þar fram og hvet ég lesendur til þess að horfa á fyrirlestur Péturs og önnur áhugaverð erindi sem flutt voru á fundinum á heimasíðu
BOLLUDAGS
Víkurfrétta og Facebook-síðu hópsins „Björgum Sundhöll Keflavíkur“. Þar kom einnig fram að Guðjón Samúelsson tók þátt í að teikna skipulag Keflavíkur á sínum tíma, eins og hann gerði víða annars staðar á landinu. Það var einnig fróðlegt að sjá hvernig önnur bæjarfélög, t.d. Akureyri, hafa hlúð að byggingum Guðjóns og varðveitt, enda margar hverjar mestu kennileiti bæjarins. Þetta getum við líka gert.
B LLUM
Reykjanesbær hefur góða sögu að segja
Reykjanesbær hefur staðið sig vel á undanförnum árum við endurbyggingu á Duus húsum,
Vatnsdeigsbollur
Mikið úrval af gómsætum Mikið úrval af gómsætum Mikið úrval af gómsætum
NAFN Á SAMEINAÐ SVEITARFÉLAG GARÐS OG SANDGERÐISBÆJAR
BOLLUDAGS BOLLUDAGS
Rjóma
B LLUM B B LLUM LLUM Gerbollur
Tillögur þurfa að hafa borist fyrir hádegi þann 12. febrúar næstkomandi.
Irish
Vatnsdeigsbollur Rjóma
Velkomin í llukaffi boRjóma
HÖNNUN: VÍKURFRÉTTIR
Rjóma
Öllum er frjálst að senda inn tillögur. Hægt er að skila tillögum á bæjarskrifstofur sveitarfélaganna, eða rafrænt.
BOLLUDAGS Karamella Royal
Hindberja
Vatnsdeigsbollur Vatnsdeigsbollur
Nefnd sem skipuð hefur verið til að gera tillögu að nafni á sameinað sveitarfélag Sveitarfélagsins Garðs og Sandgerðisbæjar óskar eftir tillögum að nöfnum. Tillögum skal fylgja rökstuðningur til stuðnings nafninu í samræmi við leiðbeiningar sem finna má á vef Sandgerðisbæjar www.sandgerdi.is og Sveitarfélagsins Garðs www.svgardur.is
Ragnheiður Elín Árnadóttir.
Velkomin íí omin Veolk b llukaffi bollukaffi
Hindberja Hindberja
Karamella
Rjóma
Karamella
Púns
Gerbollur Gerbollur
Danskar bollur Karamella Vínarbrauðsdeig
Hindberja
Gerbollur Danskar bollur
Royal Royal
Jarðarberja
Royal
Irish Irish
Irish
Rjóma
Púns
Jarðarberja
Rjóma
Púns
Jarðarberja
Vínarbrauðsdeig Danskar bollur Vínarbrauðsdeig
Vanilla
Rjóma
Núggat
Vanilla
Rjóma
Núggat
Rjóma Púns Jarðarberja Vanilla Rjóma Núggat Kökulist verslunarmiðstöðinni Firði Hafnarfirði · Iðnbúð 2 og Strikinu 3 Garðabæ · Hólagötu 17 Reykjanesbæ Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • okkarbakari.is • facebook.com/okkarbakari kokulist@kokulist.is · 555 6655 í in m o Velk Danskar bollur ffi a Vínarbrauðsdeig k u boll Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • okkarbakari.is • facebook.com/okkarbakari Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • okkarbakari.is • facebook.com/okkarbakari
16
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
Kominn í fyrsta sinn til heimahafnar í Grindavík
Máninn reyndi að fela sig á bak við fjallið þegar Óli á Stað GK kom til hafnar, en í baksýn má einnig sjá fiskvinnslu Stakkavíkur. VF-myndir: Hilmar Bragi Óli á Stað GK-99, kom í fyrsta sinn til heimahafnar í Grinda vík í síðustu viku. Skipið er í eigu Stakkavíkur en Óli á Stað GK er með krókaaflamark. Báturinn var sjósettur á síðasta ári og hefur undanfarna mánuði verið að veiðum en lagt upp í öðrum höfnum en heimahöfninni, Grindavík. Báturinn var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Seigi. Hann er 13,17
metrar á lengd og er tæp 30 brúttótonn. Hann er sagður gott sjóskip. Í bátnum eru fjórir tveggja manna klefar, borðsalur og setustofa, ásamt fullkomnu og góðu eldhúsi. Það er mikið lagt upp úr góðri aðstöðu fyrir áhöfnina. Báturinn er nær samskonar og annar bátur sem Stakkavík fékk á haustmánuðum 2014 og hét
Óli á Stað GK. Sá bátur var seldur austur á firði árið 2016 þegar fyrirtækið þurfti að gera breytingar í krókaaflamarkskerfinu. Óli á Stað GK er búinn til línuveiða en sl. fimmtudag, þegar báturinn kom fyrst til heimahafnar í Grindavík, var línan dregin skammt undan landi suður af Grindavík og veiðin var með ágætum.
AUKIN GÆÐI Í FLUGKENNSLU MEÐ NÝJUM FLUGHERMI Flugakademía Keilis hefur tekið í notkun nýjan og fullkominn flughermi sem líkir eftir tveggja hreyfla Diamond DA42 kennsluflugvél skólans. Flughermirinn er sá fullkomnasti á landinu sem notaður
er við kennslu í atvinnuflugmannsnámi og sá næst fullkomnasti á eftir þjálfunarhermi Icelandair á Flugvöllunum í Hafnarfirði. Hermirinn mun veita flugnemum kost á enn ítarlegri þjálfun en áður
og verður meðal annars hægt að æfa aðstæður og viðbrögð sem almennt er ekki hægt að æfa í kennsluflugi. Stjórnklefinn í flugherminum er nákvæm eftirlíking af DA42 kennsluvélinni og finnur nemandi því nánast engan mun á umhverfinu sem gerir þjálfunina mun raunverulegri. Á endanum munu þessir þættir skila sér í betri þjálfun nemenda Flugakademíunnar.
Hægt að æfa viðbrögð við aðstæðum sem ekki er hægt að æfa á flugi
Myndir frá Marie-Laure Parsy, nemanda í atvinnuflugnámi Keilis. Á myndunum eru Ingþór Ingólfsson, ritstjóri Allt um flug og Snorri Páll Snorrason, skólastjóri Flugakademíu Keilis
Vegna aukinnar ásóknar í flugnám hefur Flugakademía Keilis bætt við sig fjórum kennsluflugvélum. Áætlað er að vélarnar komi til landsins á næstu mánuðum og verður skólinn þá með samtals fjórtán kennsluvélar á Keflavíkurflugvelli. Auk þess á skólinn fyrir hreyfanlegan flughermi sem hefur reynst afar vel og boðið flugnemum upp á góða möguleika í grunnþjálfun,
þjálfun á stjórntækjum og þjálfunartæki í blindflugi. Snorri Páll Snorrason, skólastjóri Flugakademíunnar, segir að ákvörðun hafi verið tekin um að bæta við öðrum flughermi sem veiti nemendum enn
PMTO foreldranámskeið -fyrir foreldra 4-8 ára barna sem vilja efla uppeldisfærni sína PMTO námskeið er fyrir foreldra sem vilja læra aðferðir til að draga úr hættu á hegðunarerfiðleikum barns og stuðla að góðri aðlögun með því að: ▪ nota skýr fyrirmæli ▪ hvetja börn til jákvæðrar hegðunar ▪ nota jákvæða samveru og afskipti ▪ rjúfa vítahring í samskiptum ▪ vinna með tilfinningar og samskipti ▪ hafa markvisst eftirlit ▪ leysa ágreining ▪ auka markviss tengsl heimilis og skóla Námskeiðið er haldið í Fjölskyldusetrinu Skólavegi 1 og hefst þriðjudaginn 20. febrúar 2018. Námskeiðið er í 8 skipti og stendur frá kl. 19:00 til 21:00. Námskeiðslok eru 11.apríl.
Leiðbeinendur eru Ingibjörg María Guðmundsdóttir sálfræðingur og PMTO meðferðaraðili og Thelma Björk Guðbjörnsdóttir félagsráðgjafi og PMTO meðferðaraðili. Þátttökugjald er 10.000 kr. fyrir báða foreldra, 8.000 kr. fyrir einstakling. Hámarksfjöldi þátttakanda 20. Nánari upplýsinga og skráning á netfangið PMTO@reykjanesbaer.is.
Velferðarsvið Reykjanesbæjar
betri árangur, en með honum verður hægt að þjálfa nemendur á tveggja hreyfla vél í sama umhverfi og þeir eiga að venjast í flugvélum og líkja eftir aðstæðum með mun raunverulegri hætti en áður. Snorri bendir á að í flugkennslu er yfirleitt eingöngu verið að æfa viðbrögð við mótormissi sem hluta af neyðarviðbrögðum, en með nýja herminum megi fara í ítarleg atriði og líkja eftir ýmsum aðstæðum sem geta komið upp og þjálfa ákvörðunartöku flugmannsins við þeim. Í flugherminum, sem kemur nýr frá austurríska Diamond framleiðandanum, þeim sama og framleiðir allar kennsluvélar skólans, má kalla fram allar tegundir af veðri og vindum, velja alla helstu flugvelli heims og kalla fram margvíslegar bilanir. Það er því um mikla breytingu að ræða þegar kemur að gæðum kennslu og möguleikum sem atvinnuflugnemum í Flugakademíu Keili bjóðast. „Við erum komin með flugnámsbraut Icelandair (cadet nám) og hafa fleiri flugfélög áhuga á sambærilegu samstarfi vegna mikillar eftirspurnar eftir flugmönnum. Til þess þurfum við að fara alla leið og bjóða upp á enn betri kennsluaðstöðu og búnað, svo við getum boðið flugfélögum upp á það sem þau eru að leita eftir“, segir Snorri.
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
17
Stofna öldungaráð í Grindavík Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti að stofnað yrði Öldungarráð Grindavíkurbæjar á bæjarstjórnarfundi þann 30. janúar sl. eftir að félag eldri borgara í Grindavík lagði fram tillögu þess efnis. Verið er að byggja sex nýjar íbúðir við Víðihlíð í Grindavík sem er dvalarheimili aldraða og hefur tómstundastarf eldri borgara sem fer fram í Miðgarði í Víðihlíð verið vel sótt. Einnig var sett á laggirnar tilraunaverkefni um að bjóða eldri borgurum upp á mat í hádeginu, það tókst vel og ákveðið var að halda áfram að bjóða upp á mat í hádeginu í ár.
HJARTASTAÐUR – Þingvallamyndir í Listasafni Reykjanesbæjar
Sýning á Þingvallamyndum úr einkasafni Sverris Kristinssonar verður opnuð í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duus Safnahúsum, menningar og listamiðstöð Reykjanesbæjar, föstudaginn 9. febrúar kl. 18.00. Í tilefni 100 ára afmælis fullveldis á Íslandi veltum við fyrir okkur gildi þessa helgasta staðar Íslendinga fyrir þjóðarvitundina og þá um leið áhrifum Þingvalla á myndlist þjóðarinnar. Myndefnið á sýningunni tengist allt Þingvöllum með einum eða öðrum hætti og meðal höfundanna eru helstu listamenn Íslendinga á tuttugustu öld. Gefin er út vegleg sýningarskrá þar sem Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur og sýningarstjóri fjallar um gildi Þingvalla fyrir íslenska myndlist
og Birgir Hermannsson, lektor við Háskóla Íslands, greinir frá tengslum Þingvalla við íslenskra þjóðmenningar. Sýningin stendur til 15.apríl n.k. Listasafn Reykjanesbæjar stendur fyrir nokkrum viðburðum í tengslum við þessa sýningu í samvinnu við ýmsa aðila, s.s. Byggðasafn Reykjanesbæjar, Sögufélag Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur o.fl. og eru þeir viðburðir bæði af sagnfræðilegum og myndlistarlegum toga og sömuleiðis munu tónlist og bókmenntir koma við sögu. Viðburðirnir verða auglýstir nánar á vef safnsins. Í heild sinni er Þingvallaverkefnið, sýningin og viðburðir, hugsað fyrir almenning, sérstaklega skólahópa og fjölskyldur og eru framlag Reykjanesbæjar til fullveldishátíðarinnar 2018.
Staðgengill sendiherra Bandaríkjanna heimsótti Reykjanesbæ Jill Esposito staðgengill sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi kom í heimsókn í Ráðhús Reykjanesbæjar í síðustu viku og fékk kynningu á bæjarfélaginu og Reykjaneshöfn. Eftir kynningu fóru Jill og sendiráðsteymið með Kjartani Má Kjartansyni bæjarstjóra og Halldóri Karli Hermannssyni hafnarstjóra til
Helguvíkur í skoðunarferð. Jill var í heimsókn á Reykjanesi ásamt sendiráðsteymi og kom hún víða við, m.a. í Auðlindagarðinum, Keili á Ásbrú og gagnaveri Advania á Fitjum. Hún lét vel af dvöl sinni þegar hún kom við í Ráðhúsinu til að kynna sér bæjarfélagið, starfsemi þess, þjónustu og samsetningu.
Gerðaskóli í Garði
STAÐA SKÓLASTJÓRA Staða skólastjóra við grunnskólann Gerðaskóla í Sveitarfélaginu Garði er laus til umsóknar. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til starfa í góðum skóla, með góðan skólabrag og gera enn betri með metnaði, virðingu og leikgleði í fyrirrúmi. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2018. •
• • •
Helstu verkefni: Skólastjóri ber faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfsemi skólans, samkvæmt lögum og stefnu sveitarfélagsins hverju sinni. Vinna að gerð fjárhagsáætlana og ábyrgð á eftirfylgni þeirra. Að vera faglegur leiðtogi og fyrirmynd með umhyggju fyrir nemendum og starfsfólki. Að vinna að eflingu mannauðs og annast ráðningar starfsfólks skólans. Stuðla að framþróun skólastarfsins með reynslu og þekkingu á að leiða skólasamfélagið út frá skólastefnu sveitarfélagsins og vinna að samstarfsverkefnum/samningum sem skólinn hefur gert.
• • • • • •
Menntun, geta og færni: Grunnskólakennaramenntun og önnur reynsla samkvæmt lögum nr. 87/2008, 12. gr. Framhaldsmenntun í stjórnun menntastofnana eða sambærileg viðbótarmenntun. Menntun og reynsla af stjórnun og rekstri er kostur. Áhugi og færni í samskiptum. Áhugi og reynsla til að leiða þróunarstarf og að ná árangri í kennslu og námi. Leiðtogafærni í teymisvinnu og geta til ákvarðanatöku.
Í Sveitarfélaginu Garði eru um 1.600 íbúar. Sveitarfélagið er á nyrsta odda Reykjaness. Í Garði er blómlegt tómstunda-, íþrótta- og menningarlíf. Lögð er áhersla á að allir aldurshópar íbúanna fái notið sín í fjölbreyttu félagslífi. Góð aðstaða er til íþróttaiðkunar í vel búinni Íþróttamiðstöð. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið er að finna á vefsíðunni svgardur.is. Um 220 nemendur stunda nám við Gerðaskóla og býr skólinn við mjög góðan aðbúnað og aðstöðu. Einkunnarorð skólasamfélagsins í Garði eru: Árangur, virðing, gleði, leikur, sköpun og ábyrgð. Umsókn skal fylgja ferilskrá um menntun, störf og stjórnunarreynslu. Einnig er óskað eftir hugmyndum umsækjanda um starfsemi og þróun skólastarfs undir hans stjórn. Umsóknir skulu sendar bæjarstjóra á Sveitarfélagið Garður, Sunnubraut 4, 250 Garður, eða á tölvupóstfangið magnusstefansson@svgardur.is
Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri, Jill Esposito staðgengill sendiherra, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Ian Campell skrifstofustjóri hjá norrænu Eystrasaltsríkjunum og John P. Kill starfsmaður efnahags, umhverfis og viðskipta hjá sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi.
Nánari upplýsingar veitir Jónína Magnúsdóttir formaður Skólanefndar (jm@mss.is) Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2018
Þróun íbúðabyggðar á Suðurnesjum og S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
20 ÁRA AFMÆLI MIÐSTÖÐVAR SÍMENNTUNAR Á SUÐURNESJUM í þætti vikunnar á fimmtudagskvöld kl. 20 á Hringbraut og vf.is
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
18
MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
Söngvakeppnin, eða Eurovision, er eitt það besta sem maður getur gert til að koma sér á framfæri í tónlistarheiminum á Íslandi.
Sólborg Guðbrandsdóttir tekur þátt í undankeppni Söngvakeppninnar þann 10. febrúar nk.
Okkar eigin Eurovisionstjarna - Elskar að koma fram og syngja VIÐTAL
Sólborg Guðbrandsdóttir kemur fram í undankeppni Söngvakeppni sjónvarpsins næstkomandi laugardag ásamt Tómasi Helga Wehmeier en þau flytja saman lagið „Ég og þú“. Sólborg er fædd og uppalin í Keflavík en að hennar sögn er söngur og að koma fram eitt það skemmtilegasta sem hún gerir. Fjölskyldan hennar er söngelsk en Davíð, bróðir hennar, semur íslenska textann við lagið „Ég og þú“ og Sigríður, systir hennar, syngur bakraddir ásamt Sigurði Smára, sem er einn af bestu vinum Sólborgar. Sólborg hefur starfað sem blaðamaður hjá Víkurfréttum frá því í fyrra, en við settumst niður með henni fyrir Söngvakeppnina þar sem að hún var í hlutverki viðmælanda en ekki blaðamanns.
rannveig@vf.is
ATVINNA
UMBOÐSAÐILI
GE bílar bílasala í Reykjanesbæ óskar eftir bílasala í 100% vinnu. Um er að ræða sölu á notuðum og nýjum bílum, einnig þau verkefni sem falla til.
HÖNNUN: VÍKURFRÉTTIR
HORFÐU Á VIÐTALIÐ Í SJÓNVARPI VÍKURFRÉTTA
Rannveig Jónína Guðmundsdóttir
Kostur ef viðkomandi talar íslensku, ensku og pólsku. Smá tölvukunnátta nauðsynleg. GE bílar eru umboðsaðilar BL og Bílalands í Reykjanesbæ. Upplýsingar í síma 7767600 Guðmundur. Bolafótur 1 - 260 Reykjanesbær - GE bílar ehf - Sími 420 0400 - gebilar@gebilar.is - www.gebilar.is
MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
Systurnar baksviðs á Með blik í auga.
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
19
„Ég hef tekið þátt í Samfés, Hljóðnemanum í FS og reynt að komast inn í Söngvakeppni framhaldsskólanna, ég tók þátt í The Voice, fór í áheyrnaprufu fyrir Röddina og núna er ég í Eurovision. Ég hef líka tekið þátt í uppfærslum hjá Leikfélagi Keflavíkur.
ÞURFTI EKKI AÐ HUGSA SIG TVISVAR UM
Sólborg og Tómas kynntust í The Voice í fyrra þar sem þau voru bæði í Team Svala en Tómas hafði samband við Sólborgu eftir skilaboð frá Wales-búanum Rob Price á á Facebook. „Þegar hann hafði samband við mig með hugmynd að dúett fyrir keppnina, þá sagði ég strax já og þurfti ekkert að hugsa mig neitt um. Rob Price, sá sem hafði samband við Tómas og semur lagið með okkur, langaði að senda inn lag fyrir undankeppnina hér heima. Við hittumst þá og byrjuðum að spjalla saman, vorum komin með grunn að laginu þegar við fórum út til London þar sem við tókum lagið upp með Rob en það var mjög skemmtilegur tími.“
SÖNGVAKEPPNIN GÓÐ KYNNING
Söngvakeppnin hefur verið talin góður stökkpallur fyrir söngvara og listamenn á Íslandi, en margir hafa öðlast töluverða frægð eftir að hafa tekið þátt í henni enda er keppnin eitt vinsælasta sjónvarpsefni þjóðarinnar sem annað hvort elskar að elska keppnina eða elskar að hata hana. „Þetta er svolítið stórt og „scary“ og það er pínu klisjukennt að segja að þetta hafi alltaf verið draumurinn en þetta er það samt sem áður. Söngvakeppnin, eða Eurovision, er eitt það besta sem maður getur gert til að koma sér á framfæri í tónlistarheiminum á Íslandi.“
vel haldið utan um okkur öll, við erum velkomin alls staðar, allir eru svo næs og það er fagfólk í hverju horni. Það skiptir engu máli hvort þú ert fagmaður í faginu eða nýliði, þetta er allt saman svo ótrúlega gaman.“ Tómas og Sólborg eru búin að kynnast vel í öllu ferlinu en þau eru oft spurð hvort þau séu kærustupar. „Við erum ekki par,“ segir Sólborg og hlær, en að hennar sögn eru þau einnig ólíkir tónlistarmenn. „En einhvern veginn náum við vel saman í þessu lagi.“
VAR LAGLAUS Á SÍNUM YNGRI ÁRUM
Þegar Sólborg var lítil var hún frekar laglaus að eigin sögn. Hún kom fyrst opinberlega fram fyrir framan fólk á ættarmóti þegar hún var krakki. „Ég man hvað ég var ótrúlega stressuð, en það verður minna mál að koma fram með hverju giggi.“ Sólborg hefur tekið þátt í hinum ýmsu söngvakeppnum í gegnum árin og einnig í fleiri uppákomum. „Ég hef tekið þátt í Samfés, Hljóðnemanum í FS og reynt að komast inn í Söngvakeppni fram-
Sólborg og Tómas. haldsskólanna, ég tók þátt í The Voice, fór í áheyrnaprufu fyrir Röddina og núna er ég í Eurovision. Ég hef líka tekið þátt í uppfærslum hjá Leikfélagi Keflavíkur. Mér finnst mjög gaman að leika.“ Þá hefur Sólborg einnig tekið þátt í uppsetningu Með blik í auga á Ljósanótt sem hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár en hún hefur meðal annars verið í bakröddum á þeim sýningum. Þegar Sólborg er spurð að því fyrir hverju hún sé spenntust á laugardaginn næstkomandi segist hún hlakka mikið til þess að klára þetta. „Það er ekki því mig langar að drífa þetta af, því ég er virkilega að njóta augnabliksins og hvers skrefs í ferlinu en ég hlakka svo til þegar ég er búin
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Snemma beygist krókurinn, Sigríður og Sólborg með föður sínum.
HRAÐASPURNINGAR Uppáhaldsmatur? Nautakjöt og hnetusteik. Uppáhaldsflík? Gervipels sem ég var að kaupa í H&M. Er búin að vera nokkuð dugleg að mynda mig í honum. Uppáhalds-app? Instagram (solborgg). Saknar þú hársins? Stundum. Ég sakna þess þegar það er kalt úti, ég sakna þess að geta sett það í tagl og snúð – en svo sakna ég þess ekki því það var svo mikið vesen einmitt að þurfa að setja það í snúð. Uppáhaldsdrykkur? Ég ætti að segja
Fjöldinn allur af fagfólki vinnur í kringum keppnina og það er hugsað vel um keppendur. „Það er sjúklega
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
Sólborg og systkinahópurinn.
Vilt þú vera með okkur í liði?
Hef til sölu skerpukjöt. Upplýsingar í síma 663 3091.
Húsasmiðjan í Reykjanesbæ vill ráða starfsmann í lagnadeild.
ÓSKAST Óska tveggja herbergja íbúð í Reykjanesbæ. Erum reglusöm og reyklaus. Uppl. í síma 898 2537. Okkur fjölskyldunni bráðvantar 3–4 herbergja íbúð í Reykjanesbæ sem fyrst!! Erum reglusöm og höfum mjög góð meðmæli frá fyrri leigusala trygging engin fyrirstaða gæludýr verða að vera leyfð. Uppl. 8655719 og 8985752 . Reglusöm gömul kona óskar eftir 2. herb íbúð í Reykjanesbæ sem allra fyrst. Uppl. 8618311.
vatn, en það er Monster og Coke. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera fyrir utan það að syngja og koma fram? Mér finnst mjög gaman að skrifa, hvort sem það er tengt starfi mínu sem blaðamaður eða MORFÍs og mér finnst líka gaman að semja tónlist. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Mig langar að vinna við tónlist og í fjölmiðlum, ætli það verði ekki einhver blanda af því. Mottó? Betra er að vera sein og sæt heldur en fljót og ljót.
Húsasmiðjan leitar að öflugum liðsmanni
SMÁAUGLÝSINGAR TIL SÖLU
Fallegt hjónarúm til sölu. Upplýsingar í síma 5527949, Helga.
einhvern veginn verið svo fjarstætt í langan tíma en núna er komið að þessu og ég hlakka til að geta sagt: „Ég tók þátt í Eurovision.“
NÝTUR AUGNABLIKSINS
ERU EKKI KÆRUSTUPAR
Bílaviðgerðir Smurþjónusta Varahlutir
að klára undankeppnina því þetta er búið að vera svo langur aðdragandi og ótrúlega mikið að gera, þó mér finnist það mjög skemmtilegt. Þetta hefur
Um er að ræða fullt starf
Húsasmiðjuna einkennir góður starfsandi og gott og öruggt starfsumhverfi Umsóknir ásamt ferilskrá berist fyrir 15. febrúar í netfangið gisli@husa.is
Ábyrgðarsvið • Sala og þjónusta við viðskiptavini • Vörupantanir og umsjón með lager • Önnur almenn verslunarstörf Hæfniskröfur • Menntun eða reynsla úr pípulögnum æskileg • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð • Samskiptahæfni og þjónustulund • Íslenskukunnátta (tala og skrifa)
Byggjum á betra verði
20
UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
Að mætast á miðri leið
Sem stækkandi fjölmenningarsamfélag þurfum við að huga betur að og þjónusta betur þá aðila af erlendu bergi brotnu sem til okkar leita. Atvinnurekendur sem ráða til sín erlent vinnuafl ættu til að mynda að kynna sér vel þá menningu sem erlendu starfsmennirnir koma frá. Með því að gera svo ættu þeir að skilja betur hegðun einstaklingsins og geta betur leiðbeint honum í starfi og átt þannig betri samskipti við hann. Þetta er einstaklingnum sjálfum mjög mikilvægt því ef hann og hans hegðun er ekki skilin eða virt getur það ógnað hans öryggi og þar með andlegri líðan á vinnustaðnum og almennt í hinum nýja menningarheimi. Slíkt óöryggi getur leitt til kvíða og þunglyndis þess sem fyrir slíku verður. Þetta á þó helst við þá sem koma frá menningarheimum sem eru ólíkir þeim vestræna menningarheimi sem Íslendingar hafa alist upp við. Að auki getum við bætt við þekkingu okkar frá öðrum menningarheimum sem nýtist okkur til góðs. Að búa í íslensku samfélagi krefst þess að erlendir aðilar læri íslensku. Tungumálið er lykill að öruggara líferni þeirra sem þangað flytja þar sem atvinnu-og námsmöguleikar aukast þegar tökum er náð á tungumálinu. Að sama skapi ætti sá sem leitar vinnu á Íslandi að geta gert þá kröfu að vinnuveitandi hans skilji menningarlegan bakgrunn hans og taki tillit til hans. Þegar einstaklingar, hópar og fyrirtæki lifa og/eða vinna í öðrum menningarheimum en sínum eigin þá taka þeir með sér hugmyndir, þekkingu, fordóma, staðalímyndir og þau gildi sem í þeirra menningu eru ríkjandi og samþykkt.
Þessi huglægu gildi hafa þeir alist upp við sem rétt og gild og þurfa því bæði skilning og stuðning við að tileinka sér nýja hugsun. Það er þó mikilvægt að hafa í huga þegar unnið er með fólki frá ólíkum menningarheimum að það er langt frá því að vera einsleitur hópur. Þeir eru án efa eins misjafnir og þeir eru margir en þó mótar menning þeirra stóran þátt í hugsun og hegðun. Þó svo að það sé mikilvægt fyrir stjórnendur að skilja menningarbakgrunn erlendra starfsmanna sinna er auðvitað mikilvægt fyrir allt vinnuafl óháð menningu að starfa eftir gildum
VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM
Andrea Róbertsdóttir nýr framkvæmdastjóri hjá Kaffitári Andrea Róbertsdóttir er nýr framkvæmdastjóri kaffihúsa Kaffitárs. Áður var hún mannauðsstjóri RÚV og forstöðumaður hjá Tali sem hefur skilað henni víðtækri stjórnendareynslu. Andrea er með MS gráðu frá viðskipta- og hagfræðideild í mannauðsstjórnun, BA gráðu í félags- og kynjafræði og hefur lokið MAdiplóma í jákvæðri sálfræði. Hefur Andrea verið starfandi ráðgjafi á sviði stjórnunnar samhliða námi síðustu misserin. Kaffitár rekur sjö kaffihús á höfuðborgarsvæðinu í Bankastræti, Höfðatorgi, Kringlunni, Perlunni og Þjóðminjasafninu. Í Kruðerí Kaffitárs Nýbýlavegi í Kópavogi og Kruðerí Kaffitárs á Stórhöfða er kaffihús en þar má einnig finna bakarí. Kruðerí Kaffitárs sér um framleiðslu á öllu meðlæti fyrir kaffihúsin og eru allar veitingarnar framleiddar frá grunni af sömu ástríðu og lögð er í kaffið. Sem ein vinsælasta kaffihúsakeðja landsins hefur Kaffitár verið öflugur boðberi umhverfisvænna hátta
Að gefnu tilefni
vinnustaðarins og íslenskum lögum og reglum. Mikilvægt er að erlent vinnuafl fái upplýsingar og fræðslu um það land og þá stjórnsýslu í því landi sem þeir eru að fara að starfa í. Þá er mikilvægt að þeir fái fræðslu um réttindi og skyldur starfsmanna, réttindi þeirra í stéttarfélögum ofl. sem tengist vinnumarkaðnum. Fræðsla um lífsvenjur, íslenska menningu ofl er líka nauðsynleg. Vinnumálastofnun á Suðurnesjum lætur sitt ekki eftir liggja í þessum málum og veitir fræðslu á vinnustaði bæði til erlends vinnuafls sem og stjórnenda fyrirtækja og stofnana. Hægt er að panta fræðslu hjá stofnuninni í gegnum netfangið hildur.gisladottir@vmst.is eða í síma 515-4800. Hildur J. Gísladóttir Forstöðumaður Vinnumálastofnunar
Uppstillingarnefnd fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ hefur verið falið að gera tillögu að framboðslista fyrir kosningarnar í vor. Af því tilefni auglýsir nefndin nú eftir framboðum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí 2018. Þeir sem hafa hug á því að taka sæti á framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018 skulu senda uppstillingarnefnd skriflega kynningu þar sem þeir kynna sig og sinn bakgrunn auk þess að tilgreina hvaða sæti á lista sóst er eftir. Frambjóðendur skulu eiga kosningarétt í kosningum til sveitarstjórnar vorið 2018, vera íslenskir ríkisborg-
arar og fullra 18 ára þegar kosningar fara fram, eiga lögheimili í sveitarfélaginu og vera meðlimir í Sjálfstæðisfélögunum í Reykjanesbæ. Framboðum skal skilað netfangið: xd2018rnb@gmail.com í síðasta lagi fimmtudaginn 15. febrúar n.k.
Boðað er til stofnfundar að nýju félagi fimmtudaginn 15. febrúar kl. 20 í Golfskálanum í Sandgerði. Hið nýja félag óskar eftir frambjóðendum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Framboðsfrestur er til 2. mars. Hafið samband við: Hermann Jónsson, s. 782-7333, hjnetfang@gmail.com eða Einar Tryggvason, s. 899-8144, einar.t@simnet.is
ATVINNA GRINDAVÍK Starfskraftur óskast til að ræstistarfa í HSS hluta í Víðihlíð í Grindavík. Viðkomandi þarf að hafa aðgang að bíl og geta hafið störf sem fyrst. Vinnutími er frá kl 08:00 til 16:00. Leitað er að einstaklingi 25 ára eða eldri. Íslenskukunnátta æskileg (eða góð enska). Umsóknum skal skila á tölvupópóstfangið halldor@allthreint.is fyrir 15. febrúar nk.
Píratar boða til opins fundar fimmtudaginn 8. febrúar klukkan 20:00 í Virkjun, Flugvallarbraut 740, Ásbrú, Reykjanesbæ. Skipta eftirfarandi hugtök þig máli: Gagnrýnin hugsun, upplýstar ákvarðanir, borgararéttindi, friðhelgi einkalífsins, gagnsæi, ábyrgð, beint lýðræði, tjáningarfrelsi og sjálfsákvörðunarréttur einstaklinga? Sé svo, má vera að þú eigir samleið með okkur.
JOB OFFER IN GRINDAVÍK We need to hire one person for a cleaning job in Grindavík. Drivers license and access to a car necessary. Working hours are from 08:00 to 16:00 . We look for a person 25 years or older. Language: Icelandic or very good English. Interested please send email to halldor@allthreint.is before February 15th. HÖNNUN: VÍKURFRÉTTIR
Píratar á Suðurnesjum eru að undirbúa prófkjör og málefnavinnu fyrir bæjarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ í vor og því fleiri sem taka þátt í starfinu með okkur því meiri líkur er að okkur takist að knýja fram nauðsynlegar breytingar fyrir fólkið í bænum. Hjá Pírötum fer stefnumótun ætíð fram hjá fólkinu sjálfu, án miðstýringar. Við viljum að þú ráðir.
Helgihald í
Njarðvíkurprestakalli 8. feb. til 15. feb. 2018. Ytri-Njarðvíkurkirkja
Fjölskylduguðsþjónusta 11. febrúar kl. 11:00 í Njarðvíkurkirkju (Innri) Samhliða guðsþjónustunni verður Sunnudagaskóli kl. 11:00 í Njarðvíkurkirkju (Innri) í umsjá Heiðars og Péturs. Kóræfing í Ytri-Njarðvíkurkirkju 13. febrúar kl.19:30. Nýtt söngfólk boðið velkomið. Vinavoðir miðvikudaginn 14. febrúar kl.10:30–13:30. Fermingarfræðsla miðvikudaginn 14. febrúar kl.14:00 og kl. 16:00. Spilakvöld aldraðra og öryrkja fimmtudaginn 15. febrúar kl.20:00. Umsjón hefur starfsfólk kirkjunnar og Lionsklúbbur Njarðvíkur.
Njarðvíkurkirkja (Innri)
Fjölskylduguðsþjónusta 11. febrúar kl. 11:00. Samhliða guðsþjónustunni verður Sunnudagaskóli kl. 11:00 í umsjá Heiðars og Péturs. Foreldramorgun í Safnaðarheimili Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 13. febrúar kl.10:30. Umsjón hefur Emilía B. Óskarsdóttir. Fermingarfræðsla miðvikudaginn miðvikudaginn 14. febrúar kl.15:00. Æskulýðsstarfssemi KFUM/K í Njarðvíkurkirkju (Innri) 15. febrúar kl. 19:30–20:30. Umsjón hefur Heiðar Örn Hönnuson.
(Fréttatilkynning frá Sjálfstæðisflokknum.)
Sjálfstæðisfélög Sandgerðis og Garðs
Hefur þú áhuga á bæjarmálum hér í Reykjanesbæ?
Hlökkum til að sjá þig.
Sóknarnefndir og starfsfólk Njarðvíkurprestakalls vilja þakka öllum þeim einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum sem komu færandi hendi í sjóðinn og óskar þeim blessunar.
Auglýst eftir framboðum
og lítur á það sem samfélagslega ábyrgð sína að huga að umhverfismálum allt frá baun í bolla. Þannig voru kaffihús Kaffitárs fyrst hér á landi til að fá vottun umhverfismerkis Svansins árið 2010. Hefur Kaffitár einnig hlotið umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir öflugt umhverfisstarf. Kaffitár er í eigu hjónanna Aðalheiðar Héðinsdóttur og Eiríks Hilmarssonar sem stofnuðu Kaffitár árið 1990. Þau reka einnig nýja veitingastað í Perlunni, Út í bláinn.
Dagskrá fundarins: 1. Gildi Pírata 2. Almennar umræður um undirbúning sveitarstjórnakosninga 3. Önnur mál
Á árinu 2017 voru Líknar- og hjálparsjóði Njarðvíkurkirkna færðar peninga- og kortagjafir auk matargjafa, en mest barst tvo síðustu mánuði ársins. Tilgangur sjóðsins, sem stofnaður var 3. maí 1988 og verður því þrítugur á þessu ári, er að; „styðja og styrkja með framlögum er koma inn í gjafakortum og peningagjöfum til þeirra er til sjóðsins leita.“ Mest fór það í mataraðstoð, matakort í skóla, lækniskostnað, frístundir fyrir börn og margt fleira. Prestar Njarðvíkurprestakalls hafa séð um úthlutun í góðu samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar.
SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR KL. 11
Kristin trú gerði akkerið að vonarinnar tákni. Sunnudagsguðsþjónustan verður helguð von og minningu þeim örlagaríka sjóslyssdegi 8. janúar 1988 er Bergþór KE5 sökk og tveir úr áhöfninni fórust en þrír björguðust. Í nærveru aðstandenda, áhafnarmeðlima er komust af og kirkjugesta verður sagan sögð af Bylgju Dís Gunnarsdóttur sem einnig mun flytja einsöng. Kórfélagar syngja undir stjórn Arnórs organista. Sunnudagaskóli verður á sínum stað á sama tíma. Sr. Erla þjónar. Messu- og súpuþjónar ásamt fermingarforeldrum sinna mikilvægri þjónustu. Verið öll velkomin að þiggja súpu og Sigurjónsbrauð í lokin. MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR KL. 12
Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar. Sr. Erla flytur hugleiðingu og bæn. Arnór organisti spilar og syngur. Gæðakonur bera fram matarmikla súpu og brauð. Velkomin til okkar MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR KL. 13
Seekers bænastund með flóttafólki er öllum opin. Sr. Toshiki Toma, ásamt Keflavíkurprestum, leiðir stundina í Kapellu vonarinnar.
Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
SUÐURNESJAFYRIRTÆKI Í FREMSTU RÖÐ!
HÖNNUN: VÍKURFRÉTTIR
VIÐ ERUM STOLT AF ÞVÍ AÐ VERA Í HÓPI FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKJA Á SUÐURNESJUM SKV. ÚTNEFNINGU CREDITINFO
22
ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM
fimmtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg.
Njarðvík dæmt til að greiða uppeldisbætur fyrir Kristinn
ÍÞRÓTTASKÓLI BARNA VINSÆLL Í VOGUM Ungmennafélagið Þróttur byrjaði í haust með íþróttaskóla á laugardögum fyrir börn á aldrinum tveggja til fimm ára.
Körfuknattleiksdeild UMFN lýsir gríðarlegum vonbrigðum með niðurstöðu FIBA í máli Kristins Pálssonar. KKD UMFN hefur verið dæmd til að greiða ítalska körfuknattleikssambandinu 9600 evrur í uppeldisbætur fyrir Kristinn Pálsson fyrir veru sína hjá Stella Azzura á Ítalíu. Niðurstaða í málinu lá fyrir þann 5. febrúar sl. Ein af niðurstöðum dómsins sem telur níu blaðsíður er sú að leikheimild Kristins hafi orðið til hjá Stella Azzura þegar hann varð 18 ára og því sé ítalski klúbburinn sannanlega uppeldisklúbbur leikmannsins. Körfuknattleiksdeild UMFN mun auðvitað mótmæla þeirri fásinnu harðlega enda Kristinn leikmaður Ungmennafélags Njarðvíkur frá rúmlega 6 ára aldri til þess tíma er hann fór til Ítalíu þá liðlega 15 ára gamall. Lítið sem ekkert tillit er tekið til þess í dómi FIBA. Njarðvík er dæmt til uppeldisbóta í þremur liðum, vegna „special transfer“ frá Njarðvík til Ítalíu þar sem Kristinn var ekki lögráða, vegna skólagöngu Kristins á Ítalíu, og vegna uppihalds hans á Ítalíu. Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur mun ekki áfrýja dómnum þar sem málið tefst enn frekar fyrir vikið. Er það skoðun KKD UMFN að nú sé löngu orðið tímabært að hugað sé að hagsmunum leikmannsins og hann fái um frjálst höfuð strokið og geti haldið áfram sínum ferli. Allt afl er nú sett í að gera upp við ítalska körfuknattleikssambandið svo Kristinn öðlist leikheimild fyrir næstu umferð Domino´s- deildar karla í körfu. Vitanlega mun þessi ákvörðun höggva skörð í fjárhagsáætlun deildarinnar en hagsmunir leikmannsins eru settir í öndvegi. Þeir sem til þekkja vita hve
þungur þessi dómur er fyrir starf deildarinnar enda langt liðið á tímabilið og viðlíka útgjöld mikið áfall. Stjórn deildarinnar rær nú öllum árum að því útvega fjármagn til að leysa málið. Uppkomin staða er til háborinnar skammar fyrir FIBA enda nokkuð einsýnt að víða á meginlandi Evrópu er verið að egna leikmannagildrur og þessum aðferðum er verið að beita gegn grunlausum ungmennum, fjölskyldum þeirra og félögum. Það er nokkuð ljóst að það fer enginn leikmaður í viðlíka „unglingaprógramm“ nema hafa fengið viðeigandi þjálfun og hafa viðeigandi getu. Einhverstaðar er hún sprottin. Allt kapp er nú lagt á það að Kristinn komist í grænt fyrir fimmtudag en ef það hefst ekki þá eigi síðar en strax í þarnæstu umferð. Allir sem komið hafa að málinu eiga þakkir skildar fyrir sitt framlag, einkum og sér í lagi Kristinn Pálsson fyrir mikið æðruleysi gagnvart stöðunni, aðrir leikmenn Njarðvíkurliðsins og þjálfarateymið. Þá ber einnig að þakka Körfuknattleikssambandi Íslands fyrir veitt liðsinni í málinu.
Bryndís Björk og Hólmfríður Sigrún, leiðbeinendur.
Að sögn Marteins Ægissonar, framkvæmdastjóra Þróttar, hefur íþróttaskólinn farið vel af stað í vetur og eru í kringum tuttugu börn skráð í hann. „Það er mikið líf í Vogabæjarhöllinni á laugardögum og má segja að bæjarhjartað sé hér á laugardögum því á sama tíma eru fjölmargir aðrir gestir að nýta sér þjónustu í íþróttahúsinu. Einnig er öflugt getraunastarf Þróttar í gangi á sama tíma. Bryndís Björk og Hólmfríður Sigrún
Knattspyrnumaðurinn Samúel Kári leikur með Vålerenga í Noregi
Stefnir að því að leika á HM í Rússlandi – Landsliðssæti draumur allra fótboltaiðkenda
myndbandsfund fyrir hverja æfingu, þar er farið yfir hvernig æfingarnar verða, svo er matur, ísbað, pottur og gufa. Æfingadagurinn minn er síðan búinn um þrjú-fjögur leytið. Samúel er búinn að vera erlendis frá 2012 og hann er mjög ánægður á þeim stað sem hann er á í dag, þegar hann er spurður hvort hann sakni Íslands þá segist hann sakna fjölskyldu sinnar og vina en þau eru jafnframt dugleg að heimsækja hann til Noregs.
Fyrir hönd Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Friðrik Ragnarsson, formaður.
Auglýsing frá Sjálfstæðisflokknum í Reykjanesbæ Uppstillingarnefnd fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ hefur verið falið að gera tillögu að framboðslista fyrir kosningarnar í vor. Af því tilefni auglýsir nefndin nú eftir framboðum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí 2018. Þeir sem hafa hug á því að taka sæti á framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018 skulu senda uppstillingarnefnd skriflega kynningu þar sem þeir kynna sig og sinn bakgrunn auk þess að tilgreina hvaða sæti á lista sóst er eftir. Frambjóðendur skulu eiga kosningarétt í kosningum til sveitarstjórnar vorið 2018, vera íslenskir ríkisborgarar og fullra 18 ára á kjördegi, eiga lögheimili í sveitarfélaginu og vera meðlimur í Sjálfstæðisfélagi í Reykjanesbæ. Framboðum skal skilað netfangið: xd2018rnb@gmail.com í síðasta lagi fimmtudaginn 15. febrúar n.k.
eru leiðbeinendur á námskeiðinu en þær hafa sýnt mikinn metnað og haldið vel utan um íþróttaskólann í vetur. „Þær hafa slegið í gegn hjá foreldrum sem hafa nýtt sér þessa þjónustu og hafa foreldrar frá öðrum sveitarfélögum í kringum okkur einnig komið með sín börn hingað á laugardögum.“ Marteinn vill einnig koma því á framfæri að það séu enn laus pláss í skólanum og hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu félagsins eða Facebook-síðu ungmennafélagsins Þróttar. Allir eru velkomnir í íþróttaskólann, hvort sem þeir búa í Vogum eða ekki.
Skólinn gengur fyrir hjá landsliðskonum
„Ég er mjög stoltur og þakklátur fyrir að hafa spilað A-landsleik fyrir hönd Íslands, að spila með A-landsliði Íslands er draumur allra unga fótboltaiðkenda,“ segir Samúel Kári Friðjónsson, en hann leikur með Vålerenga í Noregi, hann gekk til liðs við liðið á síðasta ári en áður lék hann með Reading í Englandi. Hann fór ungur að árum til Englands til að láta fótboltadrauminn rætast. Samúel lék sinn fyrsta A- landsliðsleik á þessu ári í æfingaleikjum Íslands í Indónesíu og stóð hann sig vel í leikjunum. Hann hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og stefnir langt í boltanum. Víkurfréttir heyrðu í Samúel og spurðu hann út í fótboltalífið og tilveruna í Noregi. Eins og áður hefur komið fram þá lék Samúel með Reading áður en hann gekk til liðs við Vålerenga og segir hann að helsti munurinn á Noregi og Englandi sé tempóið. „Harkan er mun meiri í Englandi heldur en í Noregi.“ Samúel segir að það sé góð tilfinning að leika með A-landsliði Íslands og til þess að næla sér í sæti í liðinu fyrir HM í Rússlandi þurfi allt að ganga upp. „Rússland er stórt markmið, Ísland er með frábæran hóp af leikmönnum eins og hefur sýnt sig en ég mun gera hvað sem er til þess að komast í hópinn. Það er markmið sem ég hef sett mér og mun gera mitt allra besta til að ná því.“ Norska deildin er í fríi núna en fyrsti leikurinn er handan
við hornið. „Framundan hjá mér er deildin sem byrjar 12. mars nk. þá leikum við útileik við Kristiansund, það er stutt í þann leik fyrir tímabilið förum við til Marbella í tveggja vikna æfingaferð.“ Lífið snýst um fótbolta hjá Samúel Kára og hann er æfingadagurinn langur. „Ég vakna um níuleytið, fer á æfingasvæðið og fæ mér morgunmat þar. Um tíu hefst undirbúningur fyrir æfingar, teygjur og liðkandi æfingar. Síðan fer ég út, hita upp og svo er æfing klukkan tólf. Yfirleitt eru tvær æfingar á dag hjá mér, þá fer ég annað hvort í ræktina eftir hádegið eða á aðra æfingu, það veltur allt á því hvað þjálfarinn og aðstoðarmenn hans ákveða. Við tökum
Körfuknattleikskonurnar Birna Valgerður Benónýsdóttir og Thelma Dís Ágústsdóttir gefa ekki kost á sér í næsta landsliðsverkefni Íslands í körfubolta vegna skóla. Í samtali við Víkurfréttir segir Thelma þær einfaldlega ekki geta misst svona marga daga úr skólanum. Þá er Emelía Ósk Gunnarsdóttir meidd og ekki í hóp sökum þess og Embla Kristínardóttir leikur ekki með landsliðinu vegna afstöðu KKÍ til dæmds kynferðisbrotamanns sem leikur með karlalandsliðinu. Stelpurnar í landsliðinu eiga fyrir höndum útileiki gegn Bosníu og Svartfjallalandi í undankeppni EM 2019 og er um tíu daga ferð að ræða. Í samtali við Vísi segir landsliðsþjálfarinn Ívar Ásgrímsson málið mjög slæmt. „Við erum í undankeppni Evrópumótsins og KKÍ er búið að leggja mikinn pening og metnað í verkefnið. Ef leikmenn sjá sér svo ekki fært að taka þátt af heilum hug þarf að skoða hvað eigi að gera.“
Suðurnesjamagasín á fimmtudagskvöldum kl. 20 á Hringbraut og vf.is S U Ð U R N E S J A
fimmtudagurinn 8. febrúar 2018 • Sjónvarp Víkurfrétta
6. þáttur 2018
HVER ER ÞRÓUN ÍBÚABYGGÐAR? - Suðurnesjamagasín fjallar um málþing sem haldið verður í Hljómahöll um þróun íbúabyggðar á Suðurnesjum
Viðburðaríkt afmælisár hjá MSS RAGNHEIÐUR VILL BJARGA SUNDHÖLL og - hélt íbúafunkdriftum safnar undirs
SÓLBORG
ÆTLAR SÉR LANGT
- afmælishátíðin í Suðurnesjamagasíni vikunnar
Í EUROVISION - og Suðurnesjamagasín er #teamSólborg
MUNDI
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
LOKAORÐ ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON
Meistaramánuður Febrúar mættur og það er kominn meistaramánuður! Skemmtilegt átak/ tilraun sem gengur út á það að reyna að fá fólk til að koma sér upp betri venjum í lífinu. Fólk á að skora á sig sjálft, setja sér göfug markmið og verða besta útgáfan af sjálfum sér. (Hvað sem það nú þýðir.) Markmiðin geta verið stór eða smá en allt frá því að klífa fjöll, taka matarræðið í gegn nú eða þá fara hreinlega fyrr á fætur. Allt saman til gamans gert en samt skv. rannsóknum þá tekur það yfirleitt ca. 21 dag fyrir fólk að tileinka sér nýjar venjur svo markmiðið með þessu er eflaust að við temjum okkur nýja og betri siði sem verða svo að vana en ekki undantekningu. Við eigum sem sagt að taka einn mánuð í það að gera okkur gott en höldum svo eflaust bara áfram að vera lúsablesar hina 11 mánuðina nema við komum þessum góðu siðum upp í vana (sem við fæst gerum). Alls ekki svo slæm hugmynd, nema kannski með mánuðinn febrúar – það mætti taka einn af sumarmánuðunum sem dæmi. Ég er búinn að velta því mikið fyrir mér að taka samt þátt að þessu sinni, en hvað ég ætti eigin-
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
lega að setja mér sem markmið? Nú er mánuðurinn byrjaður og þetta er ekki alveg komið hjá mér, hvorki markmið né löngunin í að taka þátt. Ég byrjaði reyndar að taka mararræðið í gegn í janúar (að mestu leyti) svo það gengur eiginlega ekki upp, ég nenni ómögulega að klífa fjöll (í febrúar) og þá vakna ég yfirleitt nokkuð snemma því ég á bestu vekjaraklukkur í heimi (strákana mína). Hvað mögulega gæti maður samt gert er stóra spurningin? Í kringum mig er fólk sem setti sér alls konar markmið, einn ætlar að heimsækja ömmu sína oftar í febrúar sem ég skil reyndar ekki alveg því hún er með Alzheimer og mun þar af leiðandi ekkert muna eftir fleiri heimsóknum. Annar sem ég þekki ætlar að mæta í ræktina í fyrsta sinn síðan í febrúar í fyrra og jafnvel drekka meira af vatni (blandað með smá gerjuðu korni þó). Eitt besta markmiðið sem ég heyrði er frá kunningja mínum sem ætlar að grilla allar máltíðir mánaðarins. Það verður gaman á því heimili. Mitt markmið er komið, ætla reyndar að fresta meistaramánuðnum um óákveðinn tíma, taka þetta bara alla leið þegar ég er tilbúinn. Febrúar er ekki alveg mánuðurinn minn, nokkur þorrablót eftir sem dæmi. Hugmyndin með þessum meistaramánuði er eins og áður segir alls ekkert svo slæm en væri það ekki sniðugra að snúa þessu öllu við? Þ.e.a.s hafa 11 mánuði ársins sem meistaramánuði og taka svo einn mánuð þar sem maður gerir nánast ekkert, heimsækir engan, étur einungis ruslfæði, rífur kjaft og er hreinlega til vandræða. Þá erum við ekki besta útgáfan af okkur í einn mánuð heldur í 11 mánuði ársins en þennan eina mánuð sem við erum í „ruglinu“ gætum við verið í sumarfríi t.d erlendis? Spánn sem dæmi? Á Spáni er gott að djamma og djúsa ekki satt?
Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Má ekki hnoða í nokkur snjóhús til að leysa bráðasta íbúðavandann?
Byggingar í nýju Hlíðahverfi rjúka upp og steypubílar eru algeng sjón í hverfinu. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson
86 íbúðir í fyrsta áfanga Hlíðahverfis
Nýtt hverfi, Hlíðahverfi, byggist nú hratt upp í Reykjanesbæ. Það er BYGG, Byggingafélag Gylfa og Gunnars hf., sem byggir hverfið. Í fyrsta áfanga rísa byggingar við Grænulaut og Hallalaut. Um er að ræða fimm tveggja hæða fjölbýlishús með samtals 48 íbúðum. Þar verða 4 herbergja 100 fm íbúðir. Einnig tvö raðhús með samtals 7 íbúðum, 130 fermetra hús með bílskúr. Átta parhús þá með 16 einingum þar sem hver
eining er c.a 170 – 200 fermetrar. Þá verða 14 einbýlishús í fyrsta áfanga. Þau eru ca. 210 – 250 fermetrar. Samtals í þessum fyrsta áfanga eru því 86 íbúðir og áætlað er að fyrstu kaupendur flytji inn fyrir skólaárið 2018-19. Áfangi tvö í Hlíðahverfi er með stærri hluta í fjölbýli eða 170 íbúðir af 235 í heild. Verkinu hefur verið skipt upp í þrjá áfanga en fullbúið hverfi á að vera tilbúið í júní 2027, samkvæmt áætlunum BYGG.
Viltu fjárfesta á vaxtarsvæði? Eignirnar verða til sýnis föstudaginn 9. febrúar næstkomandi milli kl. 13–15. Tilboð óskast eigi síðar en kl. 11 þriðjudaginn 13. febrúar. Nánari upplýsingar á kadeco.is
Suðurbraut 890 Stærð: 2385 m2 Tegund: Vöruhús og skrifstofur
Valhallarbraut 891
Stærð: 464 m2 Tegund: Atvinnuhúsnæði
Á innan við áratug hefur byggst upp á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll, þróttmikið og litríkt samfélag með öfluga menntastofnun, fjölda spennandi fyrirtækja, gróskumikla nýsköpun og blómstrandi mannlíf. Hröð uppbygging í gagnaveraiðnaði og örþörungarækt, ásamt nálægð við Keflavíkurflugvöll gera Ásbrú að góðu vaxtarsvæði til framtíðar.
Þú getur skoðað eignirnar nánar á kadeco.is
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.kadeco.is